Annađ
27. Mars 2009
ŢAĐ SKIPTIR MÁLI AĐ ALLIR GETI VERIĐ MEĐ

Birtist í Fréttablaðinu 26.03.09. í tilefni söfnunarátaks Hjartaheilla og Stöðvar 2
...Hjartaheill og Gjafa- og styrktarsjóður Jónínu S. Gísladóttur, sem hún stofnaði til minningar um eiginmann sinn Pálma Jónsson í Hagkaupi, eru sennilega þeir tveir aðilar sem hafa lagt hvað mest fram til að styrkja og vinna að velferð hjartasjúklinga. Framlag beggja er ómetanlegt og stendur íslenskt samfélag og hjartasjúklingar í mikilli þakkarskuld við báða, sem hvorki mölur né ryð fá grandað. Á krepputímum er okkur hollt að hugsa um áhugann sem rekur samtök eins og Hjartaheill áfram og um þá einskæru góðvild sem fólst í því, þegar Jónína S. Gísladóttir stofnaði styrktarsjóðinn sem hér er nefndur...
26. Mars 2009
STJÓRNMÁLAMENN SÝNI ÁBYRGĐ
Birtist í DV 25.03.09.
Þótt okkur þyki vænt um heilbrigðiskerfið okkar og séum stolt af því fólki sem þar starfar erum við ekki alltaf ánægð með kerfið. Því fer fjarri og það eigum við aldrei að vera. En hvað jöfnuðinn áhrærir þá hygg ég að fyrir því ríki almennur þjóðarvilji að standa vörð um hann. Þess vegna hrökkvum við í kút þegar staðhæft er fólki sé mismunað eftir menntunargráðu. Þetta gerði Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður heilbrigðisnefndar Alþingis í fréttum Sjónvarps um nýliðna helgi. Hún sá ástæðu til að ...
23. Mars 2009
JÓN, GYLFI OG SPARISJÓĐIRNIR

...En Gylfi sagði fleira. Hann sagði að misráðið hefði verið að hlutafélagavæða sparisjóðina. Stofnfjárkerfið hefði verið misnotað og hann benti á hve slæmt það hafi verið að nota sparisjóðina sem fjárfestingabanka. Allir virtust sammála viðskiptaráðherranum. Líka þeir sem ....Hvernig væri að fjölmiðlarnir rifjuðu upp málflutning Jóns Bjarnasonar og þingmálin sem hann flutti um sparisjóðina? Á sumum þeirra var ég meðreiðarsveinn. Svo mætti rifja upp baráttu Skagfirðinga gegn hlutafélagavæðingu og yfirgangi - þeirra sömu og ...
19. Mars 2009
RÁĐSTEFNUR OG MÁLŢING

Ég vil vekja athygli á tveimur ráðstefnum sem fram fara í dag. Í morgunsárið efnir Heilbrigðisráðuneytið til morgunverðarfundar undir heitinu NÝ VIÐHORF - NÝJAR LAUSNIR - AUKIN JÖFNUÐUR....Grunngildin í heilbrigðisþjónustunni eru vissulega af siðferðilegum toga líkt og efni málþings í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld. Þar munu frambjóðendur fyrir komandi Alþingiskosningar ræða ,,Siðferði og samfélag". Málþingið fer fram í Strandbergi, Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju ...Ævar Kjartansson, guðfræðingur stjórnar umræðum ...og mun nýta efni málþingsins í útvarpsþátt...
18. Mars 2009
GRĆĐGIN RÍĐUR EKKI VIĐ EINTEYMING

...Sama fyrirtæki heimtar nú ríkisstuðning upp á næstum tvöfalda þá upphæð! Væri ekki nær að þeir sem fengu arðinn hjá Byr greiði hann til baka? Önnur birtingarmynd græðginnar eru arðgreiðslur til eigenda Granda. Almennt starfsfólk þar hefur samþykkt kjaraskerðingu í góðri trú. Þegar í ljós kemur að eigendur Granda nota svigrúm kjaraskerðingarinnar til að greiða sjálfum sér arð missir starfsfólkið hreinlega andlitið. Gera gróðapungar þessa lands sér grein fyrir því hverjar afleiðingar gjörða þeirra gætu orðið? ...
17. Mars 2009
BURT MEĐ BANKALEYND

...En hvað skyldi það vera sem ekki þolir dagsljósið og þykir svo slæmt að það er tækt til fjárkúgunar? Á þetta ekki einmitt erindi inn í dagsljósið? Á þjóðin ekki rétt á að fá upplýsingar um allt sem gerðist innan veggja þeirra stofnana sem leitt hafa yfir okkur mestu efnahagskreppu fyrr og síðar? Þessar fréttir færa okkur enn heim sanninn um að bankaleynd á ekki nokkurn rétt á sér. Enda eru leyndarmúrar spillingarinnar hvarvetna að hrynja. Þannig er nú verið að afnema bankaleynd um allar álfur. Kröfur um gagnsæi rísa að sama skapi. Á Íslandi er það helst Sjálfstæðisflokkurinn sem ...
9. Mars 2009
"ŢIĐ HAFIĐ EKKI RÉTT Á AĐ RANNSAKA EKKI !!!"

...Þingmönnum og ráðherrum hafa borist áskoranir um að leita til Evu Joly um rannsókn á fjármálahruninu og þá sérstaklega svindli og undandskoti fjármuna. Þessum áskorunum er ég tilbúinn að svara afdráttarlaust: Ef stjórnvöld gera ekki ALLT SEM Í ÞEIRRA VALDI STENDUR til að gangast fyrir slíkri rannsókn og reyna að hafa upp á rásnfeng sem skotið hefur verið undan þá hafa þau ekki siðferðilegan rétt til að sitja stundinni lengur við stjórnvölinn...Enda verður leitað til Evu Joly. ...
1. Mars 2009
STUTT SVAR TIL PRÓFESSORS
Birtist í Morgunblaðinu 28.02.09.
ÁGÆTI Guðjón Magnússon. Þakka rammagrein þína í Morgunblaðinu í gær. Þú spyrð mig tveggja spurninga um rekstur skurðstofa. Svörin eru einföld: Það er ekki verjandi að reka skurðstofur með sólarhringsvöktum, þar sem ekkert er að gera, eins og þú kýst að orða það...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












