Annađ
31. Október 2009
SVANHILDUR HALLDÓRSDÓTTIR: VERKSTÝRĐI AF VELVILD

...Svanhildur Halldórsdóttir hafði lag á því að hefja allt sem hún kom nálægt upp á æðra plan. Það gerði hún með frábærum tökum sínum á íslensku máli, skilningi sínum og þekkingu á sögunni og einstakri háttvísi og hlýju. Hún verkstýrði af velvild fákunnandi formanni í upphafi formannsferils og var alla tíð með afbrigðum fundvís á viskuorð sem hæfðu líðandi stundu. Þegar hugsað er til slíks samferðarfólks verður maður auðmjúkur og þakklátur...
24. Október 2009
UM ÁBYRGĐ OG ÁBYRGĐARLEYSI

...Er hægt að taka þennan mannskap alvarlega? Eða þá aðila á vinnumarkaði sem mæla honum bót? Getur verið að verkalýðshreyfingin ætli að stilla sér upp með hinum burðugu á móti öryrkjunum? Getur það verið? Nú þarf ríkisstjórnin að sýna staðfestu. Standa með Árna Páli Árnasyni, félagsmálaráðherra. Það geri ég....Ég skora á fjölmiðla að reikna út hvað 20 - 30 aura hækkun á kílówattstund eins og um er rætt, þýðir í reynd. Mér skilst að þar séum við að tala um tvo til tvo og hálfan milljarð á allan áliðnaðinn á ári. Ef við hins vegar lítum á skattalækkanir sem áliðnaðurinn hefur notið góðs af á allra síðustu árum, úr 30 í 15%, þá er það eftir því sem ég kemst næst ...
22. Október 2009
42. ŢING BSRB SETT

Ræða við setningu þings BSRB 21.10.09.
Í setningarræðu formanns BSRB er hefð að tala um undangengið kjörtímabil og það sem framundan er. Ég mun vissulega víkja að framtíðinni en einkum mun ég dvelja við það sem liðið er og láta nýjum formanni það eftir að horfa fram á veginn því einsog fram kom síðastliðið vor hef ég ákveðið að bjóða mig ekki fram að nýju til formennsku í BSRB. Það er ekki einvörðungu undangengið kjörtímabil sem er undir í mínum ávarpsorðum nú í upphafi 42. þings BSRB heldur það tímabil í heild sinni sem ég hef verið formaður bandalagsins. Það er jafnan hollt að horfa til baka, því þannig fáum við hina sögulegu sýn á tilveruna. Hún dýpkar skilning okkar á samtímanum og gerir okkur kleift að vefa þræði sögunnar inn í framtíðina af meiri skilningi en ella......
21. Október 2009
ÖLL ERUĐ ŢIĐ VELKOMIN!

BSRB gerir mér þann heiður að efna til sérstakrar menningardagskrár í dag í Háskólabíói í tilefni þess að ég læt nú af formennsku í samtökunum. Dagskráin er öllum opin og leyfi ég mér hérmeð að vekja athygli lesenda heimasíðu minnar á því. Húsið mun opna klukkan 17:00 en sjálf dagskráin hefst 17:30 og tekur um klukkustund að því mér er tjáð, en að henni lokinni er boðið upp á veitingar. Við setningu þings BSRB fyrr um daginn mun ég....
19. Október 2009
"FYRIRVARARNIR OKKAR"

...Við ætlum ekki að draga stjórnarmeirihlutann að landi, sagði varaformaður Sjálfstæðisflokksins nýlega. Varaformaður sama flokks og undirritaði allar skuldbindingarnar á Icesave síðastliðið haust - um að við myndum borga "lánið" upp að fullu - og bauð hingað Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Í morgun og aftur í Kastljósi Sjónvarps í kvöld ræddust þær við Þorgerður Katrín og Guðfríður Lilja, þingflokksformaður VG. Málflutningur hvorrar skyldi hlustendum hafa þótt trúverðugri?...
19. Október 2009
UM HOLLENSKAN OG ÍSLENSKAN RÁĐHERRA

...Ég neita því ekki að maður þarf að halda sér fast þegar hollenski fjármálaráðherrann lýsir því yfir að nú megi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fara að losa um þumalskrúfurnar á Íslendingum. Fyrir nokkrum dögum var öllum slíkum tengingum afneitað!...Í dag vorum við eina ferðina enn saman á BBC við Össur Skarphéðinsson að tala máli Íslands. Utanríkisráðherranum mæltist vel - málflutningurinn sannfærandi - og varð mér hugsað til þess hve illa Ísland hefur nýtt sóknarfæri sín á erlendri grundu til að tala beint til almennings. Smáfundir með ráðamönnum skipta litlu máli. Þeir eru viðkvæmir bara fyrir einu: Kjósendum sínum...
18. Október 2009
NÚ ŢARF YFIRVEGUN - UM ICESAVE

Icesave er aftur á dagskrá. Samningurinn er slæmur. Betri en í vor. Miklu betri. Verri en að loknu sumarþingi. Betri en í síðustu viku. Þá gekk ég úr ríkisstjórn. Til að mótmæla málsmeðferð og því að samþykkja samning sem svipti Ísland rétti til að véfengja greiðsluskyldu okkar gegn ofbeldiskröfum Breta og Hollendinga. Þessu hefur nú verið breytt til betri vegar. Það er mikilvægt. En er það nógu mikilvægt? Hvað er til ráða? Hjartað segir mér að réttast væri að fella samninginn. Skynsemin býður mér að fara varlega....
14. Október 2009
ŢOKAST?

...Bretar og Hollendingar áttuðu sig á því að málið var ekki í höfn og nauðsynlegt af þeirra hálfu að slá af kröfum sínum; kröfum sem gengu út á að hundsa réttarríkið! Auðvitað hefur það alltaf verið vilji allra sem að þessum málum koma að standa á rétti Íslands og er það ánægjulegt ef þokast nú í rétta átt. Þannig hafa forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra nú lýst því yfir að ekki komi til greina að afsala rétti Íslands til að véfengja kröfur Breta og Hollendinga falli dómur í þá veru. Þessi skilningur þarf að vera skýr í skilmálum Alþingis. Ég lít svo á að falli dómur okkur í hag væru forsendur fyrir greiðslum Íslendinga samkvæmt samningnum brostnar. Ég skil það svo að í þessa átt þokist nú og er það vel....
13. Október 2009
RÉTT HJÁ SVANDÍSI

...Umhverfisrökin eru svo þau að engin verður stóriðjan án virkjana. Fráleitt er því að taka afdrifaríkar ákvarðanir um orkusölu án þess að fyrir liggi hvaða áform við höfum um virkjanir og náttúruvernd. Þetta liggur einfaldlega ekki fyrir enda vanrækt af hálfu fyrri ríkisstjórna. Ákvörðun Savndísar Svavarsdóttiur sem ýmsir hafa gagnrýnt, þar á meðal fundurinn í gær, snýr þó ekki að öllum þessum pakka. Hún snýr að línulögn fyrir Helguvíkurálver. Skipulagsstofnun hafði ekki gert athugasemd við umrædda lögn. Það höfðu hins vegar náttúruverndarsamtök gert og viljað heildstætt mat á framkvæmdina. Ef Svandís Svavarsdóttir hefði virt þær óskir að vettugi hefði hún brugðist sem...
10. Október 2009
FUNDUR Í KRAGAKAFFI
Laugardags-morgun-spjallfundur verður í Kragakaffi - félagskaffi okkar VG-ara í Hamraborginni í Kópavogi - klukkan 10:30. Þar gefst tækifæri til að skýra sjónarmiðin og skiptast á sjónarmiðum um þá stöðu sem uppi er í stjórnmálum þessa stundina. Það er brýnt að taka slíka umræðu nú. Reyndar alltaf brýnt, en sjaldan brýnna en nú. Óþarft er að færa fyrir því rök.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












