Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

30. September 2008

VERKALÝĐSHREYFINGIN: EKKI FRAMHALD Á ÓBREYTTU ÁSTANDI

Ráðstöfun 84 milljarða króna til að koma í veg fyrir að Glitnir verði gjaldþrota hljóta að fylgja skilyrði. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi verður að skilja að þessi fjárveiting verður ekki samþykkt umyrðalaust og án skilyrða. Í fyrsta lagi hlýtur fjárfestingarstefna bankans að verða endurskoðuð frá grunni - rannsókn fari fram á innviðum bankans og hvernig farið hefur verið með fé þar innandyra. Sjálftaka á að vera liðin tíð og menn eiga fremur að horfa til kjara ljósmæðra um viðmið í bankastjóralaunum en til tungslins ...Verkalýðshreyfingin í Evrópu hefur sent frá sér yfirlýsingu sem er að finna á heimasíðu BSRB þar sem sú krafa er reist að fjárveitingum úr opinberum sjóðum fylgi samfélagsleg ítök og áhrif...

25. September 2008

UM FRELSUN ORKUGEIRANS

SAMFYLKING - AUÐHYGGJA
...
Hvað á þá að segja um nýjasta nýtt frá Samfylkingunni sem ég efast ekki um að skemmti einhverjum. Alla vega leiðarahöfundi Morgunblaðsins sem ekki á orð af hrifningu yfir þeirri tillögu Helga Hjörvars, Samfylkingaþingmanni að nú sé ráð að einkavæða einstakar orkuveitur og gera þær að fyrirtækjum undir handarjaðri fjárfesta á markaði: „Með því að frelsa þau úr opinberu eignarhaldi skapast grundvöllur fyrir orkuútrás..."... Þegar síðan skyggnst er á bakvið allt talið um útrásarvíkingana á sviði orkumála þá er það ekki hjálpar- og uppbyggingarstarf sem vakir fyrir fjárfestunum heldur hvernig græða megi á því að komast yfir auðlindir annarra þjóða. ...

24. September 2008

SPURĐU PÁL


Um leið og ég óska Óðni Jónssyni, nýráðnum fréttastjóra sameinaðrar fréttastofu hljóðvarps og sjónvarps á RÚV ohf. velfarnaðar í starfi, vil ég vekja athygli á ráðningarmátanum. Hinn nýi fréttastjóri er ráðinn án auglýsingar og samkvæmt ákvörðun eins manns, Páls Magnússonar, útvarpsstjóra. Þetta er alla vega skilningur hins nýráðna fréttastjóra. Í DV, miðvikudaginn 17. september, er hann sem "maður dagsins" spurður, af hverju þú en ekki Elín Hirst? Ekki stóð á svari...

21. September 2008

HVORT ŢARF AĐ SENDA Í MEĐFERĐ LÁRUS EĐA INGIBJÖRGU?


...Lárus Welding talaði reyndar líka um nauðsyn þess að þétta raðirnar. Ég held að það hafi verið í setningunni á undan þessari um orkugeirann, að nú þyrfti að beina gróðasókninni þangað. Hann minntist ekki á heilbrigðisþjónustuna. Það kom mér svolítið á óvart því Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hefur lagt áherslu á að þar séu að opnast miklir möguleikar. Kannski er þetta einhver verkaskipting í fjárfestahópnum. Kannski ætla einhverir aðrir að nýta sér þá hetjudáð Samfylkingarinnar að samþykkja sjúkratryggingastofnun Guðlaugs Þórs, einkavæðingarráðherra heilbrigðismála. Stofnunin hvílir, sem kunnugt er, á lögum sem skilgreinir öll samskipti í heilbrigðiskerfinu á viðskiptavísu. Þetta auðveldar...

21. September 2008

GUĐINN HEITIR GRĆĐGI


Eftirfarandi er viðtal Kolbrúnar Bergþórsdóttur við ÖJ í Morgunblaðinu 20.09.08.:
...Við erum eljusöm þjóð með merka sögu. Hér er fjöldi stórra og smárra fyrirtækja sem eru í ágætum rekstri. Við erum vel menntuð, eigum gríðarlegar auðlindir. En við höfum verið að fara afturábak undanfarin ár vegna þess að vírus frjálshyggjunnar hefur hreiðrað svo rækilega um sig. Þeir sem ráða eru hættir að trúa á heilbrigða skynsemi, hættir að trúa á skapandi atvinnurekstur. Nú er það bara braskið sem blívur. ...Þegar menn tala um það í fullri alvöru að fara með heilbrigðisþjónustuna og orkukerfið, innviði samfélagsins, út á þetta sama markaðstorg þar sem mönnum hefur mistekist jafn herfilega og dæmin sanna þá hlýtur maður að vara við því. Ég vil að sjálfsögðu ....

21. September 2008

FINNUR OG GUĐLAUGUR ŢÓR


...Hið óhugnanlega við þessa þróun er hvernig fjárfestingargeirinn er farinn að renna hýru auga til heilbrigðisþjónustunnar og horfir til Guðlaugs Þórs með nákvæmlega sömu væntingum og fjármálageirinn og rafmagnsgeirinn horfði til Finns Ingólfssonar á sínum tíma. Finnur brást þessum aðilum ekki. Hann einkavæddi bankana, rafmagnseftirlitið og heita vatnið og við vitum hvert framhaldið varð. Guðlaugur þór er nú að færa heilbrigðisþjónustuna eins og hún leggur sig upp á færiband markaðsvæðingar...

18. September 2008

MORGUNBLAĐIĐ VERĐUR SÉR TIL SKAMMAR

Birtist í Morgunblaðinu 17.09.08.
MBL  - LogoÞað er ótrúleg ósvífni gagnvart þeim fræðimönnum sem hér eiga í hlut hvernig ferill þeirra er afbakaður og svertur af hálfu ritstjórnar Morgunblaðsins.......Og höfundur Reykjavíkurbréfsins heldur áfram og leggur að jöfnu allan almennan atvinnurekstur, verslun og viðskipti og síðan heilbrigðisþjónustuna...Í ljósi þess hvernig nú er komið fyrir mörgum fyrirtækjum og jafnvel heilum starfsgreinum sem fjárfestar hafa farið höndum um á undanförnum árum, þá hlýtur það að teljast fífldirfska í meira lagi að reyna að telja þjóðinni trú um að nú sé um að gera að koma heilbrigðisþjónustunni á Íslandi út á fjárfestingarmarkað...

17. September 2008

TAKK FYRIR KILJUNA


Dagskrárgerð þarf ekki að vera kostnaðarsöm til að vera áhugaverð. Hvers vegna finnst mér Kilja Egils Helgasonar vera gott sjónvarpsefni? Sennilega er margt sem veldur: Viðfangsefnið skemmtilegt; bókmenntir og áhugavert fólk, stundum kynlegir kvistir, efnistökin í senn örugg og afslöppuð og útkoman því góð. Að þessu sinni var staðnæmst við Málfríði Einarsdóttur, rithöfund. Fyrsta bók Málfríðar kom út árið 1977 en þá var hún komin hátt á áttræðisaldur. Það var Samastaður í tilverunni, en tilefni umfjöllunar Kiljunnar í kvöld um Málfríði Einarsdóttur  var að þessi bók var að koma út í nýrri kiljuseríu Forlagsins. Málfríður bjó yfir óvenju frumlegri hugsun:  „Ætíð hef ég átt samastað, að minnsta kosti hefur aldrei farið svo, að ég hafi þurft að vera hvergi ..."  Í þættinum fengum við að ...

16. September 2008

TRYGGVI ŢÓR OG ÓSÝNILEGA HÖNDIN


...Aftur og aftur gerðist efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde, forsætisráherra mótsagnakenndur. Þannig sagði hann annars vegar að markaðurinn  - það sem frjálshyggjumenn af trúarlegri lotningu kalla hina ósýnilegu hönd - myndi bjarga öllu - og taki menn eftir orðalaginu: Þegar tugþúsundir manna missa atvinnu sína (Lehman Brothers)  þá kallast það hreingerningar í kerfinu! Hins vegar segir hann að ríkið muni koma inn með afgerandi hætti til bjargar bönkunum.  Auðvitað var það stóra fréttin í viðtalinu við efnahagsráðgjafa forsætisráðherra, að hann gaf sterklega í skyn að bönkunum yrði bjargað. Af hverju? Er ekki rétt að láta markaðinn bara gera hreint? Og  hverjum á að bjarga? Fjárfestingunum, sem bankarnir fá ekki lengur lán til að fjármagna?...

16. September 2008

MISSKILNINGUR AĐ AĐGREINA VIĐSKIPTABANKA OG FJÁRFESTINGARSJÓĐI?


Í viðtali í Kastljósi Sjónvarpsins í gær sagði Björn Ingi Hrafnsson að „sá misskilningur hefði verið uppi" hér á landi að aðskilja bæri viðskiptabankana og fjárfestingarbankana. Ég lagði við hlustir því ef þessi misskilningur hefur verið uppi þá er ég sekur um að vera haldinn honum því frá árinu 2003 hef ég verið flutningsmaður - nú síðast á haustþingi ásamt Jóni Bjarnasyni - að frumvarpi sem gengur nákvæmlega út á þetta...Nú kemur hins vegar á daginn hvar styrkur bankanna liggur. Þeir „njóta tryggingar" eins og Björn Ingi segir, fyrst og fremst í krafti þess að hafa almenn viðskipti innandyra. Það sem spyrja þarf um, er hið gagnstæða við það sem Björn Ingi gerir en hann nálgast málin, þykir mér, út frá sjónarhóli fjárfestingarbankanna: Hvernig verða almennir viðskiptavinir bankanna, þeir sem háðir eru  „hefðbundinni bankastarfsemi" , tryggðir í ...

13. September 2008

VARNARSIGUR RÁĐHERRANNA


...Flestir stóðu í þeirri trú að Samfylkingin ætlaði að afnema sérréttindi þingmanna, embættismanna og ráðherra ef hún kæmist í ríkisstjórn. En ef litið er á þennan hóp sem kjarabaráttuhóp  sem við hljótum að gera í ljósi reynslunnar, þá verður að viðurkenna að hann hafi náð sæmilegum árangri, sérstaklega ráðherrahluti hópsins.
Á einu ári hafa ráðherrar í ríkisstjórn tryggt sér lífeyrishækkun   UMFRAM aðra starfsmenn ríkisins að upphæð 23.610 krónur á mánuði. Frábær árangur miðað við 20.300 kr. launahækkun sem samið var um við almenna starfsmenn ríkisins í vor...

13. September 2008

TVĆR KONUR Í LAUGARDAGSMOGGA


...Þriðjungurinn af fyrrnefndu opnuviðtali við ráðherrann er af höfði Guðlaugs þórs ráðherra, sennilega til að tryggja að enginn velkist í vafa um á hvaða búk það sitji. Þessi líkn gagnvart Guðlaugi Þór er unnin af Kolbrúnu Bergþórsdóttur, en hún virðist hafa fengið sérstakt hlutverk á blaðinu sem eins konar pólitísk Florence Nightingale fyrir stjórnarmeirihlutann ...Síðan er það Guðfríður Lilja Grétarsdóttir með sinn vikulega laugardagspistil í Morgunblaðinu. Hún hefur sýnt það í skrifum sínum að hún þarf enga opnu til að koma boðskap sínum á framfæri enda einhver besti penni landsins. Alltaf er það...

11. September 2008

VILL MORGUNBLAĐIĐ AĐ ŢJÓĐIN SOFI?

Birtist í Morgublaðinu 10.09.08.
MBL  - Logo...BSRB hefur látið sig íslenskt velferðarkerfi miklu skipta. Það er í senn vinnusvæði félagsmanna og öll skiptir okkur máli sem þjóðfélagsþegna á hvaða forsendum þjónustan er skipulögð, til að þjóna almannahag eða sem arðsemisrekstur. BSRB hefur því látið til sín taka í þessari umræðu. Framlag samtakanna hefur ekki síst verið í því fólgið að veita þekkingu og reynslu erlendis frá hingað til lands. Færustu fræðimenn hafa verið fengnir til fyrirlestrahalds. Staksteinahöfundur Morgunblaðsis gerir tvo þessara fræðimanna að skotspæni sínum. Þessir fræðimenn eiga það sameiginlegt að gagnrýna einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar. Ekki treystir Staksteinahöfundur sér til að rökræða ...

10. September 2008

EINKAVĆĐINGIN Á ALŢINGI Í DAG

Birtist í Fréttablaðinu 09.09.08.
FB logo...Ferðin var farin undir handarjaðri verktakafyrirtækisins sem skipuleggur markaðsvæðingarátak heilbrigðisráðherrans! Stjórnarandstaðan hefur hins vegar notað tímann og viðað að sér upplýsingum. Hverju skyldi sú rannsóknarvinna hafa skilað? Í ljós kemur að um þróunina í Svíþjóð er engin sátt. Markaðsvæðingin í heilbrigðiskerfi Svía sætir þvert á móti vaxandi gagnrýni...Einn helsti sérfræðingur Breta á þessu sviði, Allyson Pollock, prófessor við Edinborgarháskóla, sagði í erindi sem hún flutti hér á landi að umrætt frumvarp svipaði til löggjafar í Bretlandi frá þeim tíma sem  Bretar hófu vegferðina með heilbrigðiskerfi sitt inn á markaðstorgið undir leiðsögn Margrétar Thatchers...  

9. September 2008

AĐ VINNA Á HANDARBAKINU


Stundum er talað um handarbakavinnubrögð. Þá er átt við hroðvirknislegar  og klaufalegar aðfarir við vinnu... Vinnubrögð heilbrigðisráðherra varðandi frumvarp um nýja sjúkratrygginga- og innkaupastofnun á heilbrigðissviði er af þessu tagi. Ráðherrann hefur gerst sekur um flaustursleg og ómarkviss vinnubrögð og að því leyti er réttmætt að tala um ...

9. September 2008

BUSH ŢJÓĐNÝTIR - JÓHANNA EINKAVĆĐIR


Í fréttum fáum við nú að heyra að Bandaríkjastjórn hafi ákveðið að taka með valdboði yfir drjúgan hluta af íbúðalánasjóðakerfinu í Bandaríkjunum. Stærstu lánastofnanirnar á íbúðamarkaði hafi verið fluttar undir ríkisforsjá. Þær fjármálastofnanir sem hér um ræðir væru búnar að sýna óráðsíu og stjórnendur þeirra svo slaka dómgreind að þær væru nú komnar í þrot. Nú ætti skattborgarinn ekki annarra kosta völ en að grípa í taumana og taka sjóðina...

7. September 2008

TRÍPOLÍ-TENGINGIN


...Þarna talar maður sem ekki þarf að rökræða málin hvað þá grafast fyrir um líklegar afleiðingar gjörða sinna. Bandaríkjamenn og fjölþóðafyrirtæki ætla sér að græða á Gaddafi. Hverjir ætla sér að græða á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins íslenska? Ekki svo að skilja að málflutningur Guðlaugs Þórs og Gaddafis sé sambærilegur. Það er hann ekki. Hitt eiga þeir sameiginlegt að þurfa ekki að færa djúp rök fyrir afstöðu sinni þegar ráðist er í grundvallarbreytingar á samfélaginu. Nærri báðum standa viðhlæjendur sem annað hvort nenna ekki að setja sig inn í málin eða telja að það kæmi þeim sjálfum í koll að setja fram stífa gagnrýni. Eða hvað haldið þið Samfylkingarráðherrar? Myndi það kosta ykkur...

5. September 2008

HUGSUM STÓRT MEĐ ŢORLEIFI


Það fer ekki fram hjá neinum Reykvíkingi  sem að jafnaði  leggur leið sína um miðborgina að vandi útigöngumanna fer vaxandi.  Þeir ráfa um  í reiðileysi um borgina, illa á sig komnir enda margir langdruknir og húsnæðislausir. Athygli vakti viðtal við Þorleif Gunnlaugsson, borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík,  í Ísland í dag á Stöð 2 í fyrradag um málefni þessa fólks. Þorleifur kvaðst hafa setið í hálft annað ár í nefnd sem leita á lausna fyrir þetta fólk  og nú vildi hann sjá niðurstöður; að komist yrði frá orðagjálfri til athafna. Útgangsmenn væru upp til hópa fíklar og margir með geðræn ....

2. September 2008

Á AĐ SVÍKJA Í HÚSNĆĐISMÁLUM?

Birtist í Fréttablaðinu 01.09.08.
FB logoSamfylkingin undirbýr nú undanhald í húsnæðismálum. Svik myndi einhver kalla það eftir allar heitstrengingarnar um að ekki verði hróflað við Íbúðalánasjóði. Bankarnir hafa sem kunnugt er ofsótt sjóðinn, kært hann til Brussel og leitað allra leiða til að koma honum fyrir kattarnef. Krafan hefur verið sú að Íbúðalánasjóður megi vera til en aðeins til að sinna „félagslegum úrræðum". Að öðru leyti verði sjóðnum meinað að veita lán með baktryggingu ríkisins. Nú þegar það hefur sýnt sig hve mikilvægur Íbúðalánasjóður hefur reynst almennum íbúðakaupendum er óskiljanlegt að félagsmálaráðherra skuli ...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta