Annađ
31. Júlí 2008
HROKAFULLT PRÓFGRÁĐUMANNATAL

...Talsmenn hálaunalækna segja niðurstöðu úr atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning fela í sér skýr skilaboð: Meirihluti lækna vilji að menntun þeirra sé metin að verðleikum. Svipaðir tónar hafa heyrst frá ýmsum hópum háskólamenntaðara að undanförnu. Þeir tala með fyrirlitningu um tilraunir til að jafna kjörin. Slíkt tal hljómar ekki sérlega vitiborið í mínum eyrum. Læt ég þá réttlætið liggja á milli hluta. Langskólamenntað fólk verður að skilja að menntun er ekki og á ekki að vera óskilyrt ávísun á miklu betri kjör en þeir njóta sem búa yfir minni skólamenntun...
31. Júlí 2008
GUĐLAUGUR ŢÓR TALAR, SAMFYLKING ŢEGIR
Birtist í 24 stundum 30.07.08.
...Það sem veldur mestum heilabrotum hvað þetta allt varðar, er þögn Samfylkingarinnar. Hún þegir á meðan Guðlaugur Þór framkvæmir. Hann framkvæmir í anda Thatchers og síðar Blairs. Þessir bresku stjórnmálamenn komust vel áleiðis að eyðileggja bresku heilbrigðisþjónustuna. Alltaf sögðust þau vera að gera minni háttar breytingar. Tæknilegs eðlis. Þau bjuggu til hina pólitísku friðþægingarformúlu sem Guðlaugur Þór fylgir. „Bara smávægilegar tæknilegar breytingar í hagræðingarskyni." En svo gerist það einn daginn að menn vakna sem af vondum draumi við það að kerfið hefur verið eyðilagt...
31. Júlí 2008
STJÓRNMÁL OG FJÖLMIĐLAR
.Birtist í DV 30.07.08.
...Samhljómur er að aukast að nýju með Morgunblaðinu og frjálshyggjudeild Sjálfstæðisflokksins. Eflaust eru hinir harðpólitísku tónar nýjum eigendum Mogga að skapi. Hvað með 24 stundir sem er í eigu sömu aðila og Morgunblaðið? Hve lengi skyldu blaðamenn þar fá að starfa óáreittir? Hvað með Fréttablaðið og DV? Andar Baugur þar ofan í hálsmálið á ritstjórninni? Og Viðskiptablaðið - skyldi ritstjórnin verða vör við eigendur sína frá Bakkavör?...
24. Júlí 2008
http://rikiskaup.is/utbod/14559

Farið endilega inn á slóðina í þessari fyrirsögn. Þarna kemur í ljós að Heilbrigðisráðuneytið hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, falið Ríkiskaupum að bjóða út umönnun 12 mikið fatlaðra einstaklinga. Mér er kunnugt um að þeir voru ekki spurðir álits. Bara boðnir út. Númer 14559 hjá Ríkiskaupum. Mannfyrirlitning? Það þykir mér. Og það þykir viðkomandi einstaklingum líka. Það er mér kunnugt um. Á síðu Ríkiskaupa segir hverjar þarfir viðkomandi fólks eru. Einnig þær þarfir sem snúa að persónulegustu högum. Allt sett á netið. Búið að bókhaldsvæða manneskjurnar að forskrift einkavæðingarráðherra heilbrigðismála. Þetta er að sjálfsögðu ...
18. Júlí 2008
ŢAKKAĐ FYRIR SIG

Ég átti stórkostlegan afmælisdag í gær, fimmtudaginn 17. júlí, fékk fjöldann allan af gjöfum og kveðjum - í bundnu máli og óbundnu - og að sjálfsögðu blómin einsog í körfunni sem sjá má hér að ofan, með blómum í íslensku fánalitunum, frá vinum mínum í Starfsmannafélagi Færeyja. Veðrið var yndislegt - hlýtt og stillt og sólríkt að undanskildum hitaskúr sem kom þegar ræðumenn kvöddu sér hljóðs. Stórkostlega góðar og skemmtilegar ræður voru fluttar enda engir viðvaningar á ferðinni: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem stýrði samkomunni af glæsibrag, Steingrímur J. Sigfússon, Geir H. Haarde, Guðni Ágústsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Hjörleifur Guttormsson, séra Gunnþór Ingason, sem flutti drápu auk eldheitrar ræðu, Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson sem einnig flutti mér kveðju í bundnu máli ( sjá að neðan þegar þar að kemur) og Kjartan Gunnar Kjartansson, fræðimaður og blaðamaður. Ómar Ragnarsson, flutti ávarp og ...
16. Júlí 2008
EFNT TIL AFMĆLISHÓFS
Á morgun fylli ég 60 ár og hef ákveðið að efna til afmælishófs fyrir vini og velunnara af því tilefni. Þetta geri ég undir bláhimni við götuna mína, Grímshagann í Reykjavík. Ég á góða granna sem leyfa mér að tjalda yfir götuna fari svo að veðurguðirnir stríði mér. Veðurspáin lofar hins vegar góðu. Ég er að endurtaka leikinn frá því fyrir tíu árum en þá hafði ég nákvæmlega þennan sama hátt á. Ég set þetta hér á síðuna enda þótt á henni sé sjaldan að finna persónulegt efni. Hins vegar langar mig til að fastagestir síðunnar viti að þeir eru hjartanlega velkomnir á Grímshagann - sem er botnlangi út úr Suðurgötu - á milli klukkan 17 og 20 á morgun, fimmtudaginn 17. júlí!
11. Júlí 2008
AĐEINS EINN SKOĐANAHÓPUR GERIR ÚT FJÖLMIĐLA Á ÍSLANDI!

...Þarna voru svið sem þeir komust ekki inn á nema með takmörkunum. Þessar takmarkanir og skorður er nú verið að fjarlægja eina af annarri. Þar með er dregið úr lýðræðinu en vald auðsins aukið að sama skapi. Svo eru það fjölmiðlarnir. Fyrr á tíð gáfu skoðanahópar, það er stjórnmálaflokkarnir, út dagblöð. Nú gerir einn skoðanahópur út fjölmiðla. Það eru talsmenn einkavæðingar og markaðshyggju; sömu mennirnir og eiga fjármagnið, einkavædda bankana og nú líka alla helstu fjölmiðla landsins að undanskildu RÚV ohf sem enn er í eigu ríkisins. Í Fréttablaðinu kemur fram að þeir feðgar, Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson eigi nú meira en helming í Árvakri sem gerir út Morgunblaðið, 24 stundir og mbl.is. Blaðið segir að þeir ...
3. Júlí 2008
ER KOMINN TÍMI TIL AĐ GANGA ÚR EES?
Birtist í Morgunblaðinu 02.07.08.
Enda þótt ég hefði frá upphafi miklar efasemdir um ágæti EES samningsins hef ég þó fram til þessa ekki verið því fylgjandi að við segðum okkur frá honum, einfaldlega vegna þess að það er eitt að gerast ekki aðili að EES og leita eftir tvíhliða samningi einsog m.a. Sjálfstæðisflokkurinn vildi gera áður en til kastanna kom, annað að ganga út úr hinu Evrópska efnahagssvæði eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að ganga þar inn. Síðan samningurinn var gerður höfum við þurft að sitja undir endalausu ógagnrýnu mærðartali um ágæti EES, sérstaklega frá...
3. Júlí 2008
AĐ GETA EKKI HORFST Í AUGU VIĐ SJÁLFAN SIG
Birtist í DV 02.07.08.
Þegar svo er komið að forsætisráðherra þjóðarinnar líkir gagnrýninni fréttamennsku við dónaskap, einsog gerðist nýlega, og þegar umhverfisráðherra segist ekki leyfa myndatökur af ísbjarnarhræi því þær gætu reynst óþægilegar, þá erum við komin nálægt því sem á góðu máli heitir ritskoðun. Þægilegar myndir, óþægilegar fréttir. Hver er munurinn? Þessi spurning vaknaði þegar iðnaðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu um álver á Bakka við Húsavík nýlega. Iðnaðarráðherra sá samhengið þarna á milli. Honum var greinilega ekki um það gefið að ...
3. Júlí 2008
„SKAMMASTU ŢÍN!"
Birtist í 24 Stundum 02.07.08.
Ágætur kunningi minn sagði nýlega að sér þætti merkilegt að nú þegar Kalda stríðinu er lokið, Berlínarmúrinn orðinn að molum í bréfapressum á borðum heldra fólks, Kaninn farinn heim til sín, og friður hefur brotist út a.m.k í okkar heimshluta, þá taki Samfylkingin sig til og stofni her- og varnarmálaráðuneyti og leyniþjónsutu í lokuðu rými á Miðnesheiði. Þetta er mikið rétt hjá kunningja mínum enda höfum við mörg furðað okkur á því hvernig Samfylkingin ætli að skýra og réttlæta milljarða fjáraustur úr skatthirslum almennings á meðan...
3. Júlí 2008
EES TIL ÓŢURFTAR
Birtist í Fréttablaðinu 02.03.08.
Um síðustu helgi voru forsíður tveggja íslenskra blaða, Morgunblaðsins og Fréttablaðsins undirlagðar kröfum um að Íslendingar gengju tafarlaust í Evrópusambandið. Í öðru blaðinu var vitnað í viðskiptamógúl og hinu talskonu banka. Kvöldið áður hafði framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, haft uppi svipaðan málflutning í ljósvakamiðlum og talsmaður fjármálastofnana sagði að íslenska ríkið væri hugsanlega skaðabótaskylt vegna þess að dómsaðili í Brüssel hefði komist að þeirri niðurstöðu að Íbúðalánasjóður samræmdist ekki markaðsskilmálum á hinu Evrópska efnahagssvæði. Meintur glæpur...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












