Annađ
26. Júní 2008
ÓNÝT RÍKISSTJÓRN
Birtist í 24stundum 25.06.08.
...Nú skal játað að að undirritaður hefur minni áhyggjur af vísitölu stundargróðans en langtímahagsmunum íslensks samfélags. Af hinu síðarnefnda er hins vegar ástæða til að hafa verulegar áhyggjur. Vandinn sem við stöndum frammi fyrir er nefnilega ekki skammtímavandi á hlutabréfamarkaði. Við horfum upp á langtímavanda, gjaldþrot þeirrar peningafrjálshyggju sem hér hefur verið rekin í nær tvo áratugi. Ríkisbankarnir voru einkavæddir og við þeim tóku silkiklæddir fjármálamenn sem reynst hafa ...
25. Júní 2008
ÍBÚĐALÁNASJÓĐUR, RÍKISSTJÓRNIN OG ÁBENDINGAR JÓNS BJARNASONAR
Stundum þarf að benda á einfaldar staðreyndir til að þær verði öllum augljósar. það gerir Jón Bjarnason alþingismaður í mjög svo umhugsunarverðri grein í Morgunblaðinu í dag. Jón fjallar þar um nýlegar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar varðandi Íbúðalánasjóð. Hann nefnir tvennt sem sérstaklega er vert að huga að: Í fyrsta lagi sé verið að stíga skref í þá átt að gera Íbúðalánasjóð að heildsölubanka (nokkuð sem fjárfestingafyrirtæki hafa krafist um árabil að gert yrði gegn mótmælum almennings). Í öðru lagi segir Jón að ívilnanir til byggingaverktaka og lánafyrirgreiðsla þeim til handa sé í reynd ekkert annað en byggðastyrkur til ...
23. Júní 2008
MARKAĐSVĆĐING Í BOĐI SAMFYLKINGARINNAR

Kristján L. Möller, samgönguráðherra Samfylkingarinnar, efnir til hátíðar næstkomandi fimmtudag. Þá býður hann til stofnfundar hlutafélags um rekstur og þjónustu á Keflavíkurflugvelli. Þar sem ég þekki til - í röðum starfsfólksins - þykir þetta ekki vera neitt sérstakt fagnaðarefni eða tilefni hátíðar enda veit fólk sem er, að ráðist er í hlutafélagavæðinguna með tvennt í huga: Í fyrsta lagi að hafa réttindi - og þá helst lífeyrisréttindi - af starfsfólki; starfsumhverfið verður að sögn sveigjanlegra eftir að réttindin hafi verið skert. Í hlutafélagi sé til dæmis hægt að segja starfsmanni upp starfi skýringarlaust, nokkuð sem ekki sé hægt í opinberum stofnunum. Í öðru lagi sé þetta leið til að hlú að forstjóraliðinu, sem með þessu móti komist út úr opinberu launaumhverfi og fái þess í stað skömmtuð kjörin úr hendi skilningsríks meirihluta í stjórn háeffsins. Slíkri skömmtunarstefnu til pólitískt útnefndra vildarvina sé unnt að ...
22. Júní 2008
AFBURĐAFÓLKIĐ OG VIĐ HIN

...Á kannski að selja dýrt aðganginn að dvalarheimilum fyrir aldraða svo hægt verði að borga forstöðufólki með „reynslu og kunnáttu"á borð við þá sem Guðmundur Þóroddsson telur sig búa yfir almennileg forstjóralaun? Eða gæti verið að hæfileikafólk sé víðar að finna en í stjórnunarstöðum? Getur verið að þegar allt kemur til alls snúist þetta um að hafa jafnvægi á milli gjaldtöku, skatta, þjónustu og launa? Og að þegar einblínt er á launin sé viðfangsefnið að deila launasummunni út á réttlátan hátt þannig að allir þeir sem sinna verðugum verkefnum fái mannsæmandi laun...Annars er það ekki amalegt fyrir íslenskt „hæfileikafólk" að hafa fengið eins öfluga talskonu og Kolbrúnu Bergþórsdóttur á leiðarasíðu Morgunblaðsins. Verra fyrir okkur hin sem ...
7. Júní 2008
FRÁBĆR MENNINGARHÁTÍĐ

Með ánægjulegustu samkomum sem ég sæki eru hinar árlegu Menningarhátíðir BSRB í Munaðarnesi... Í Munaðarnesi er á hverju sumri - og hefur svo verið í tæpa tvo áratugi - efnt til málverkasýningar en við opnun hennar er haldin Menningarhátíð. Að þessu sinni er það sýning myndlistarkonunnar Soffíu Sæmundsdóttur sem prýðir þjónustumiðstöðina og stendur sýningin til 1. október nk. ...Á Menningarhátíðinni er jafnan reynt að bjóða upp á það besta á sviði ljóðlistar og tónlistar og í dag var þar engin undantekning á. Stórkostlegt var að hlusta á eitt okkar allra besta og vinsælasta skáld, Þórarin Eldjárn, skáldið með djúpu röddina og alvarlegu, flytja ljóð sín. Í þeim er hvert orð og hver setning svo úthugsuð að þau fanga salinn í einu vetfangi. Djúp hugsun, óborganlegur húmor og glaðbeitt háð, ofið saman við gamla bragarhætti, gerði það að verkum...
6. Júní 2008
ÖLL VELKOMIN Í MUNAĐARNES Á MORGUN

Á morgun verður haldin hin árlega Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi í Borgarfirði. Menningarhátíðin, sem hefst klukkan 14, er haldin í tilefni þess að opnuð er sýning á málverkum Soffíu Sæmundsdóttur, myndlistarkonu. Sýningin stendur fram til 1. október. Við opnunina mun Þórarinn Eldjárn rithöfundur lesa úr verkum sínum og sungin verða ljóð úr Heimskringlu Þórarins við lög eftir Tryggva M. Baldvinsson. Það er Hallveig Rúnarsdóttir sem syngur við undirleik Hrannar Þráinsdóttur. Í boðskorti sem sent hefur verið út er auglýst að Eyjólfur Eyjólfsson syngi einnig en svo verður ekki því hann á að koma fram á tónleikum á Sauðárkróki síðdegis á morgun og nær ekki að vera á tveimur stöðum. Þá syngur hinn borgfirski Freyjukór...
4. Júní 2008
STYRMIR AF MORGUNBLAĐSVAKTINNI

...Eftir að Styrmir varð frjáls af Kalda Stríðinu og í einhverjum mæli Flokknum, var sem hann tæki sig til flugs. Þá fékk hin gagnrýna hugsun og manngildissjónarmiðin sem hann augljóslega ber í brjósti fyrir alvöru að njóta sín. Ég nefni heilbrigðismálin, stríðsrekstur Bandaríkjanna og NATÓ á undanförnum árum og misserum í Asíu og víðar sem hann gagnrýndi hart, orkumál, umhverfismál, misskipting í þjóðfélaginu og síðast en ekki síst málefni geðsjúkra sem hann studdi betur en allir aðrir áhrifamenn í íslenkum fjölmiðlum..Frjáls Styrmir er góður skríbent. Vissulega gat sviðið undan skrifum hans, í mínum flokki sem öðrum. En þannig á það ...
2. Júní 2008
TVÍSKINNUNGUR "HERLAUSRAR" ŢJÓĐAR

...Mér kom þetta í hug þegar núverandi utanríkisráherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagði við opnun nýrrar „Varnarmálaskrifstofu" í gær að Ísland hefði verið og yrði herlaust land. Og hún bætti því við, að Ísland herjaði á engan! Þetta er rangt! Ísland átti beinan þátt í árásunum á Júgóslavíu 1999 og hefur verið beinn aðili að stríðsátökunum í Afganistan og Írak í gegnum NATÓ. Að mínu mati er það að sumu leyti heiðarlegri afstaða að senda eigin ungmenni inn á stríðsvettvang en að samþykkja að ungmenni annarra þjóða skuli send í hernað í árásarskyni og tala síðan af upphafningu um eigið vopnleysi og friðarást. Ef alvara væri að baki beitti ráðherrann sér fyrir því að ...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












