Annađ
24. Maí 2008
ŢAĐ RIGNIR Á ŢOTURNAR

... Ég segi við Actavis, hjálpið okkur að stöðva kjararýrnun almennings, sem er í frjálsu falli. Takið þátt í því að slátra verðbólgunni. Lækkið lyfjaverð um 20%. Ferðist með Flugleiðum og Iceland Express. Þið búið á Íslandi og eruð Íslendingar. Leyfið þotunum að...
15. Maí 2008
ŢRÍR SKOĐANAHÓPAR UM EFTIRLAUNALÖGIN

...Ég tel slíkar breytingar vera til þess fallnar að drepa málinu á dreif. Í þessum hópi er formaður Samfylkingarinnar og gott ef ekki líka þingfréttaritari fréttastofu Sjónvarps sem aftur og ítrekað birtir okkur afstöðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem róttæka tilraun til að ráðast gegn spillingunni í frumvarpinu. Fyrir fáeinum dögum birti Fréttastofan frétt um að formaður Samfylkingarinnar vildi afnema lögin og nú í kvöldfréttum mátti skilja umræðuna sem fram fór á Alþingi í dag á þann veg að Ingibjörg Sólrún berðist hatrammri baráttu gegn þeim sem stæðu í vegi fyrir því að „verstu skafankar" væru sniðnir af lögunum. Fyrir okkur sem vorum á staðnum var þetta ...
13. Maí 2008
FUNDAHERFERĐ VG UM MATVĆLAÖRYGGI OG FRAMTÍĐ ÍSLENSKS LANDBÚNAĐAR

Ég minnist þess þegar Þuríður Backman, félagi minn í pólitíkinni, fór að brýna mig að gleyma ekki að tala um matvælaöryggi þegar landbúnaðarumræðan væri annars vegar. Þuríður var forspá um þróunina. Alllangt er um liðið síðan hún sagði mér að heimurinn væri að breytast. Við stæðum ekki frammi fyrir þeim vanda einum að ná í ódýran mat heldur hinu að fá yfirleitt mat og að hann stæðist mestu gæðakröfur. Allir þessir spádómar eru að rætast. Sífur Samfylkingarinnar um að allt sé fengið með því að fá kjúkling á gjafaprís og kál sem ekkert kostar fær á sig aðra mynd ...Í dag og á morgun efnir Vinstrihreyfingin grænt framboð til fundaherferðar um þetta málefni. Hvet ég lesendur síðunnar til að lesa kynningarefnið fyrir fundina - í knöppum stíl hér að neðan - og þá ekki síður að sækja auglýsta fundi...
13. Maí 2008
SAMTÖK UM SAMFÉLAGSÁBYRGĐ

Hinn 1. maí síðastliðinn voru stofnuð Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum. Gengið var frá stofnskrá og kjörin fimm manna stjórn. Formaður er Árni Guðmundsson en hann hefur sinnt verkalýðsbaráttu og æskulýðsstarfi um langt árabil og meðal annars ... Vonandi tekst nýstofnuðum Foreldrasamtökum að vekja samfélagið til vitundar um ábyrgð sína. Það hlýtur að verða fjölmiðlum, félagasamtökum, bæjarstjórnum, fyrirtækjum, Alþingi og ríkisstjórn umhugsunarefni að til þessa þurfi að koma...
8. Maí 2008
Á HNJÁNUM FRAMMI FYRIR FJÁRMAGNINU
Birtist í DV 07.05.08.
...Nýjasta afrekið er svo frumvarp sem gerir ráð fyrir að undanþiggja söluhagnað af hlutabréfum skattlagningu. Á það hefur verið bent að vegna frestunarheimilda og möguleika á að skjóta sér út fyrir landsteinana með söluhagnaðinn hafi þessi skattur sjaldnast verið inntur af hendi. Þegar frumvarpið kom upphaflega fram átti á móti niðurfellingu skattsins að afnema heimild til frádráttar vegna vinnu við hlutabréfaviðskiptin. „Það gengur ekki" sögðu þá fjármálafyrirtækin. Og stjórnarmeirihlutinn hlýðir. Fyrirsjáanlegt er því að við sitjum uppi með lög sem undanþiggja söluhagnað af hlutabréfaviðskiptum skatti og í ofanálag verður vinnan við að afla þessara skattlausu tekna einnig undanþegin skatti...
4. Maí 2008
ŢÁ FLISSAĐI EGILL...

...Ég hef blandað mér nokkuð inn í umræðuna um heilbrigðismálin á undanförnum misserum og árum. Reynt að færa rök fyrir því að markaðsvæðing heilbrigðisþjónustunnar hafi samkvæmt rannsóknarskýrslum orðið dýrari og leitt til mismununar. Ekki vottaði fyrir röksemdum gegn þessum staðhæfingum okkar sem gagnrýnum stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum í þættinum í dag. Heilbrigðisráðherrann afgreiddi þvert á móti minn málflutning þannig að þar sem ég færi væri á ferðinni Marteinn Mosdal okkar þingmanna, eins og hann komst að orði. Þetta mun vera aulafígúra úr skopþætti , sem aldrei tekur rökum. Ja, hver skyldi ekki taka rökum? Varla ráðherrann, varla þáttastjórnandinn. Enda flissaði hann...
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












