Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

30. Mars 2008

KEPPNI UPP Á LÍF OG DAUĐA - EĐA VERA MEĐ Í LEIK?


Róðrakeppnin á milli ensku háskólanna í Oxford og Cambridge á sér langa sögu, allt aftur á öndverða 19. öld. Í báðum þessum fornu háskólabæjum er fjöldi sjálfstæðra háskóla eða háskólagarða, colleges, einsog þeir  kallast á ensku þótt allir flokkist þeir undir Oxford eða Cambridge háskóla eftir atvikum.  Þessir garðar keppa sín í milli en mynda síðan sameiginlegt lið sem stefnt er gegn hinum háskólabænum. Að þeirri keppni varð ég vitni fyrir réttri viku, á páskadag, í smábænum Henley sem stendur á bökkum árinnar Thames. Að þessu sinni voru það kvennalið háskólabæjanna sem öttu kappi hvort við annað. Hvers vegna skyldi ég vera með hugann við róðrakeppni háskólanna í Oxford og Cambridge...?

28. Mars 2008

AF HVERJU AFNEMUR HAGKAUP EKKI ÁLAGNINGU Á VÖRUR?


Sífellt heyrum við og sjáum auglýsingar frá Hagkaupum þar sem mælst er til þess að ríkið afnemi virðisaukaskatt af söluvarningi sem verslunarkeðjan hefur á boðstólum. Hvatningin er að vísu óbein því okkur er sagt að Hakaup felli niður úr vöruverðinu hinn illa virðisaukaskatt  til að sýna okkur viðskiptavinunum fram á hve mikil kjarabót það væri að losna við þessar álögur ríkisins. Ef ég hefði rúm fjárráð gæti ég vel hugsað mér að skjóta inn nokkrum auglýsingum með hvatningu um að Hagkaup færi aðra leið og ...

26. Mars 2008

HVAR ENDAR „MANNRÉTTINDABARÁTTA" ŢÓRHALLS?


...Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við börðumst mörg hver gegn því að Ríkisútvarpið, stofnun sem er rekin með lögþvinguðum greiðslum frá þjóðfélagsþegnunum - okkur öllum - yrði tekin út úr þessu lagaumhverfi. Spurningin sem Þórhallur vill láta reyna á er hvort ekki hafi verið gengið nægilega langt í lagabreytingunum til þess að hann sleppi fyrir horn. Ekki veit ég hvort stjórnendur RÚV ohf hafa hugsað þessi mál alveg til enda. Þannig er hætt við að sú spurning gerist áleitin hvort greiðendur afnotagjalda séu tilbúnir að borga gjöld til stofnunar sem neitar að upplýsa hvernig fjármunum þeirra er varið...

23. Mars 2008

KVEĐJUR Á PÁSKUM


Í mínum huga eru páskar skemmtilegur tími. Almennt er fólk í fríi frá vinnu. Ekki má þó gleyma öllum þeim sem þurfa að standa vaktina fyrir okkur og ekkert fá fríið, hjúkrunarfólkið, löggæslan að ógleymdu verslunarfólkinu sem gert að standa sífellt lengri vaktir. Ég hef oft velt því fyrir mér...

22. Mars 2008

AĐ KOMA LÍFSREYNSLU TIL SKILA


Séra Gunnar Kristjánsson, prestur á Reynivöllum í Kjós,  messaði í Brautarholtskirkju á föstudaginn langa og var predikun hans útvarpað. Í mínum huga er ætið gefandi að hlýða á séra Gunnar, enda er hann frábær greinandi, með listrænt og heimspekilegt innsæi og mikla sögulega yfirsýn. Í predikun sinni kom séra Gunnar inn á umræðu innan kirkjunnar um hvaða sýn hún ætti að leggja áherslu á - bjartsýni eða þjáningu -  og fléttaði hann inn frásögn af...

20. Mars 2008

HÚSBĆNDUR OG HJÚ


...Samkomulag þingskapameirihlutans byggði ekki á þessu. Það byggði á því að búa til fyrirkomulagið „húsbændur og hjú", starfsmenn einstakra þingmanna. Undir lok umræðunnar um þetta makalausa frumvarp var því lýst yfir af hálfu stjórnenda Alþingis að stefnt skyldi að því að skapa öllum þingmönnum þjónustufólk af þessu tagi!  
Skyldu skattgreiðendur hafa heyrt þessa yfirlýsingu? Mér brá þegar ég heyrði hana og þá ekki síður þegar ég sá vinnuskjöl sem þessu tengdust þar sem hugtakinu húsbóndavald brá fyrir. Fyrst hélt ég að það væri missýn. Svo reyndist ekki vera. Þá varð mér líka ljóst hvað orðið afturhald þýðir. Verra þótti mér að hugsa til þess að afturhaldið væri allsráðandi á Alþingi í dögun 21. aldarinnar.Ástæðan fyrir því að ég ákvað sem ungur maður að beita mér í verkalýðsbaráttunni var til að berjast gegn þessari hugsun. Nákvæmlega þessari ...

...

18. Mars 2008

VARAŢINGMAĐUR Á HVÍTUM SLOPPI


Skyldi vera eitthvað í Codex edicus læknanna  um það hvenær sé við hæfi að koma fram í hvítum læknasloppi í pólitísku viðtali og þá hvenær rétt sé að láta sloppinn hanga á snaganum? Að sumu leyti hefði mér fundist heiðarlegra af Þorvaldi Ingvarssyni, 1.varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins í N-austurkjördæmi að klæðast jakkafötum, jafnvel teinóttum, í fréttaviðtali við Sjónvarpið í kvöld þegar hann talaði fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum... Þorvaldur fór á nokkuð lipran hátt með stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að fjármagn skuli fylgja sjúklingi og nú þurfi að búa í haginn fyrir samkeppni. Ég náði þessu að vísu ekki alveg hjá honum með samkeppnina við útlönd. Sjálfum finnst mér þetta snúa meira...

16. Mars 2008

VĆRUKĆRIR FJÖLMIĐLAR SVĆFA SAMFÉLAGIĐ


...Það á að verða öllu hugsandi fólki umhugsunarefni þegar starfsfólki er vikið úr starfi fyrir að bera fyrir brjósti hag þeirrar starfsemi sem því er treyst fyrir. Einnig hljótum við að íhuga værukærð fjölmiðla. Með einstaka heiðvirðum undantekningum virðast þeir varla rumska frammi fyrir ofbeldi af þessu tagi. Værukærir fjölmiðlar svæfa samfélagið. Í sofandi samfélagi viðgengst síðan einræðiskennd framkoma. Hana eigum við að forðast eins og heitan eldinn því slíkt stjórnarfar drepur allt í dróma. Í þjóðfélagi sem er í gerjun einsog okkar, er þörf á víðtækri, opinni og lýðræðislegri umræðu. Núverandi ríkisstjórn ...

16. Mars 2008

RITSTJÓRI 24 STUNDA, GEYSIR OG ŢJÓĐMINJASAFNIĐ


...Þetta er mín niðurstaða, ekki ritstjórans. Hann vekur hins vegar athygli á sjónarmiði sem vert er að gaumgæfa.  Á 19. öldinni og eftir því sem leið á þá 20. fögnuðu félagslega þenkjandi menn því þegar samfélagsrýmið var stækkað, almenningur fékk aðgang að almenningsgörðum og síðar söfnum  án endurgjalds. Listasöfn og önnur söfn urðu öllum opin og hefur því verið haldið fram með tilvísun í rannsóknir og reynslu að beint samhengi sé á milli gjaldtöku og heimsókna: Því minni gjöld, þeim mun betri nýting. Þess vegna segi ég, Geysir verði okkar allra, líka Þjóðminjasafnið - án endurgjalds....

14. Mars 2008

HVAĐ KOSTAR ŢAĐ AĐ MEIĐA FÓLK?

Birtist í Fréttablaðinu 13.03.08.
Frettablaðið...Af málskjölum að dæma  virðist vefsíða  Ómars  hafa verið nokkuð  glæfraleg  á köflum,  óspart dylgjað um pólitíska andstæðinga og stundum gróflega snúið út úr orðum þeirra.  Því fer fjarri að Ó.R.V.  sé saklaus af pólitískum leðjuslag.  Þrátt fyrir þetta samhengi hlutanna  lætur dómarinn sér  ekki nægja að dæma áburðinn um rasisma ómerkan heldur á Gaukur Úlfarsson að punga út með 300.000 þúsund krónur í miskabætur og 500.000 kr.  fyrir málskostnaði...Þetta þýðir að menn  skuli gæta orða sinna á hinum pólitíska vígvelli, annars skuli þeir hafa verra af. Ef þú hins vegar ert kona og þér er misþyrmt þannig að þú bíður verulegan skaða er til einskis að leita til dómstóla um miskabætur. Í hugum kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi er reyndar svo komið að dómstólaleiðin er slík þrautaganga að aðeins lítill hluti þeirra kærir ofbeldið...

12. Mars 2008

NOKKRAR ÁBENDINGAR ÚR SKAGAFIRĐI


...Ekki reyndist það viðleitninnar virði að leita til Fjármálaeftirlitsins. Langur tími leið þar til stofnunin sýndi eitthvert lífsmark svo heitið geti en virðist síðan ekki gera meiri kröfur til sjálfrar sín en svo að finna það sér helst til afreka að hafa svarað stofnfjáreigendum „skriflega"! Þetta eru sannast sagna kaldar kveðjur til fólks sem staðið hefur í strangri baráttu. Kærumál fólksins heita á kanselímáli Fjármálaeftirlitsins „ábendingar".  Eins og sjá má á netslóð er hér um að ræða langa baráttu sem háð hefur verið í fjölmiðlum og fyrir dómstólum. Ef baráttufólkið hefði viljað hagnast sjálft persónulega hefði það farið að dæmi margra annarra í svipaðri stöðu og reynt að selja hluti sína hæstbjóðenda. Því var ekki að heilsa enda á ferðinni hugsjónafólk sem er að...

11. Mars 2008

VG UM ALLA BORG


Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur VG efnt til íbúafunda í Reykjavík um ýmis málefni undir yfirskriftinni VG um alla borg. Í kvöld klukkan 20 verður haldinn fundur í Gerðubergi í Breiðholti og er fundarefnið, Bær í borg - skiptir hverfalýðræði máli? Ég verð annar tveggja frummælenda á fundinum. Hinn frummælandinn er Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG í Reykjavík. Svandís hefur öðlast mikla reynsla í borgarpólitíkinni og kann án efa að svara spurningunni betur en ég.  Ekki má þó gleyma því að við erum ekkert síður að beina spurningunni til fundarmanna og viljum heyra þeirra sjónarmið. Einu get ég þó svarað strax..

10. Mars 2008

SAMKEPPNISSTOFNUN GEGN SAMFÉLAGI?


...En menn eru ekki búnir að gefast upp. Nú er það Samkeppnisstofnun sem tekur upp þráðinn til að reyna að fullnusta það sem einkavæðingarsinnum tókst ekki í vor og haust. Nú á að banna samfélaginu - okkur öllum -  að eiga orkugeirann saman! Og höfuðið er bitið af skömminni með því að það opinber stofnun sem stendur fyrir þessum hernaði gegn almenningi! Samkeppnisstofnun má gjarnan upplýsa um samráð í almennri verslun, bensínsölu og vöxtum. En hún á að l...

7. Mars 2008

RYKKORN GEIRS


...Eða eru menn búnir að gleyma dæmisögunni um Davíð og Golíat? Gæti það nú ekki verið að málstaður gerði menn smáa eða stóra eftir atvikum. Þannig var Svíþjóð, svo dæmi sé tekið, móralskt stórveldi á dögum Olofs Palme en smækkaði til muna eftir að Svíar tóku að steypa utanríkisstefnu sína  í móti Evrópusambandsins.
Í þessu fari er önnur ræða sem forsætisráðherra vor flutti í vikunni. Til umfjöllunar var mengun af völdum stóriðju á Íslandi. Sem kunnugt er stefna Íslendingar hraðbyri í átt að því að verða á meðal þeirra þjóða sem spúa út mestum koltvísýringi á hvert mannsbarn. Aftur þarna var forsætisráðherra búinn að smækka okkur niður, að þessu sinni í agnarlítið korn. Um mengun af okkar völdum sagði Geir H. Haarde á Alþingi...

3. Mars 2008

EGILL OG GUĐLAUGUR ŢÓR Á SKRAFI


...Eftir að Guðlaugur Þór fór að bjóða út störf á Landspítalanum hefur hann gerst ljósfælinn. Alltaf þegar ráðerrann hefur auglýst nýjar deildir eða nýja starfsemi til útboðs mætir hann í fréttatímana til að lýsa því einhliða yfir að þetta hafi ekkert með einkavæðingu að gera. Hvílíkur misskilningur! Já hvílíkur misskilningur, át Egill, þáttastjórnandi upp í drottningarviðtalinu á sunnudag. Þetta hefur allt verið til góðs, er það ekki Guðlaugur Þór? Sóltún og allt það? Jú, allt af hinu góða svaraði einkavæðingarmálaráðherrann og ók sér makindalega í drottningarhásæti Silfursins...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta