Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

31. Desember 2008

ÁRAMÓTAKVEĐJUR


Ég færi lesendum síðunnar góðar kveðjur á síðasta degi ársins. Þetta ár hefur verið viðburðaríkt og undir lokin erfitt eins og við öll þekkjum. Framundan eru hjá okkur öllum verkefni að kljást við, bæði stór og smá. Ég vona að árið framundan - árið 2009 -  verði ykkur hverju og einu  gott og þjóðinni gæfuríkt.

29. Desember 2008

HAFIĐ ŢÖKK HALLGRÍMUR OG ÚLFAR!


...En hvað gerist? Eftir að Úlfar fór höndum um mig og Hallgrím, við að kynna okkur, menn sem vel rúm 300 ár skilja að, þá er ég farinn að fletta upp í Guðbrandi Þorlákssyni biskupi á Hólum, 16. Og 17. aldar afreks- manninum og Arngrími lærða, Brynjólfi Sveinssyni, Guðríði brottrændri og ....Ég sagði í Þorláksmessupistli hér á síðu að ÚÞ væri góður sagnamaður, frábær penni ... Nú segi ég ...Þú hefur skilað af þér bókmenntaafreki! Öllu á dýptina; heimspekina, sögulega innsýn, manneskjuna...

28. Desember 2008

HVERS VEGNA ŢURFTI NAFNLAUSA ÁBENDINGU?


...En hvers vegna lögreglan? Jú, hún hafði fengið nafnlausa ábendingu! Ha? Þurfti nafnalausa ábendingu? Er ekki búið að vera að rannsaka þessi mál? ... Þetta gerist á sama tíma og ríkisstjórnin sker niður í almannatryggingum, við fatlaða, við skólakerfið, heilbrigðiskerfið. Þetta gerist líka á sama tíma og verið er að hlaða skuldum og sköttum á bakið á launaþjóðinni langt fram í tímann.  Á sama tíma og byrjað er að skerða kjörin hjá launalágu póstburðarfólki. .. Þetta er samhengið. Þau sem völd eru að óförum okkar kunna að hafa skotið undan sem nemur þriðjungi af fjárlögum. Bara si svona. Málið skoðað en engin alvöru rannsókn! Stöð 2 hefur síðan eftir Fjármálaeftirlitinu að þar hafi menn haft vitneskju um þessa fjármagnsflutninga en...

28. Desember 2008

BEINTENGING Í SVEITIR LANDSINS


...Meira en slæmt - afleitt - þótti mér að missa af þingi annan mann sem ég hef átt alllöng kynni við. Það er stórvinur minn Guðni  Ágústsson, Framsóknarmaður með stórum staf. Það er mikill sjónarsviptir að Guðna þegar hann nú segir skilið við Alþingi. Guðni var afgerandi í mannlífinu á Alþingi, setti á það sinn sterka svip og skreppur þingið saman við brotthvarf hans...

22. Desember 2008

MEĐ GÓĐRI KVEĐJU Á JÓLUM


Ég óska lesendum síðunnar gleðilegra jóla með ósk um farsæld á komandi ári. Í dag sendi ég út 200. fréttabréf síðunnar en að jafnaði eru fréttabréfin send þeim sem þess hafa óskað með sjö til tíu daga millibili... Vonandi verður það ár sem nú fer í hönd ár samstöðu. Á samstöðunni þurfum við nú að halda sem aldrei fyrr.

22. Desember 2008

ÁFRAM SÉRRÉTTINDI ŢINGMANNA OG „ĆĐSTU" EMBĆTTISMANNA


Einhver mesti loddaraleikur á Alþingi fyrr og síðar hefur verið viðhafður af hálfu Samfylkingarinnar að undanförnu um eftirlaunalögin svonefndu sem kveða á um sérréttindi þingmanna, ráðherra og „æðstu" embættismanna. Á lögunum er nú verið að gera breytingar án þess þó að sérréttindin séu afnumin. Engu að síður sagði formaður Samfylkingarinnar við atkvæðagreiðslu í morgun að verið væri að afnema lögin! Og að allt væri það Samfylkingunni að þakka! Við þá sem vilja vita hið sanna í þessu máli bendi ég á að...

21. Desember 2008

LÍMDUR VIĐ HALLGRÍM

Ég ákvað að njóta lífsins til fulls í dag. Drakk heitt súkkulaði, skrifaði á nokkur jólakort, hlustaði á Mozart og Ragga Bjarna, leit við í Kringlunni hjá þeim Sæma Rokk og Ingólfi Margeirssyni, gömlum vini og skólabróður, þar sem þeir undirrituðu nýútkomna bók sína. Síðan var það Hallgrímur okkar Pétursson, sálmaskáldið mikla. Í nýútkominni skáldsögu Úlfars Þormóðssonar um ævi Hallgríms -  sem ég reyndar var búinn að óska mér í jólagjöf - en gafst upp á að bíða - er dregin upp ljós mynd af aldeilis mögnuðum manni...Úlfar Þormóðsson þekki ég af góðu. Fáa menn hef ég eins gaman af að ...

19. Desember 2008

VERKALÝĐSHREYFINGIN AUGLÝSIR

afnamoj
Í dag birtist í blöðum auglýsing frá BSRB og ASÍ þar sem Alþingi er hvatt til þess að hafna nýrri sérrétindaútgáfu þeirra Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á eigin eftilraunum. Einsog flestum er kunnugt setti meirihluti Alþingis lög árið 2003 um sérstök vildarkjör sem fyrir „æðstu" embættismenn, sem svo eru nefndir, þingmenn og umfram allt ráðherra. Allar götur síðan hefur þessu verið kröftuglega mótmælt í þjóðfélaginu og að nokkru leyti innan þings. Vísa ég þar í eigin orð, frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur og nú síðast frumvarp frá þingflokki VG. Allt hefur komið fyrir ekki þótt varnir oddvita ríkisstjórnarflokkanna séu smám saman að bresta. Hins vegar ætla þau að reyna enn einu sinni...

17. Desember 2008

HVATT TIL ÁSKRIFTAR


Senn líður að því að ég sendi út 200. fréttabréf heimasíðunnar. Nokkuð er um að fólk, sem hefur óskað eftir því að fá send reglulega fréttabréf  mín, fái þau ekki. Ég vil af þessu tilefni hvetja hlutaðeigandi að skrá sig að nýju. Það má gera í til þess gerðum reit hér til hliðar. Þess má geta að slíkt fréttabréf var sent út fyrir fáeinum dögum. Hafi skráðir viðtakendur ekki fengið bréfið hvet ég þá til að skrá sig að nýju og að sjálfsögðu alla þá aðra sem áhuga hafa á að fá þessi bréf send sjálfkrafa. Ef þið síðan fáið ekki ...

15. Desember 2008

FRÁBĆR BJÖRK


...Björk og félagar vinna nú að því að vekja skapandi umræðu til að örva nýsköpun. Stóra málið er ekki hvort allir séu sammála öllu sem frá hópnum kemur enda held ég að enginn ætlist til þess. Hugsunin er nefnilega sú að varpa ljósi á málin frá ýmsum hliðum, leiða fólk og hugmyndir saman og skapa þannig nýja nálgun.
Rauður þráður í öllu því sem Björk og félagar taka sér fyrir hendur er hins vegar þessi: Virðing fyrir umhverfinu. Sjá http://www.nattura.info/ .Það var því engin tilviljun að á vegum hópsins kæmu hingað til lands öflugir talsmenn sjálfbærrar þróunar í Bandaríkjunum nú um stundir, þeir Paul Hawken og John Picard... en það var Sigurður Gísli Pálmason sem hafði millligöngu um...

15. Desember 2008

FYRIR HVERJA STENDUR FRÉTTASTOFA RÚV VAKTINA?


...En mærðarvellan sem flóði um alla netmiðlana var með ólíkindum þótt verstar væru fréttir RÚV. Forræðishyggja í dularklæðum mannréttinda.
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi, sýndi allan tímann hógværð og kurteisi. Baðst afsökunar fyrir mistök sín. Á þessu var reyndar hamrað í fréttum RÚV. En hvar er afsökunarbeiðni fréttastofu RÚV gagnvart fólki sem greinilega var misboðið, samanber yfirlýsingu sem fjölskylda stúlkunnar og hún sjálf birti eftir að tíundað var í Ríkisútvarpinu að borgarfulltrúinn hefði beðist afsökunar. Í yfirlýsingu fjölskyldunnar kemur fram að borgarfulltrúinn hafði aflað allra tilskilinna leyfa þótt honum hefðu orðið á mistök sem hann reyndi að leiðrétta og fjölskyldan hafði fullan skilning á.
sbr. http://smugan.is/frettir/frettir/nr/360 

7. Desember 2008

FRAMLAG PÁLS BALDVINS BALDVINSSONAR TIL ŢJÓĐFÉLAGSUMRĆĐU

Birtist í Fréttablaðinu 06.12.08.
FB logoDanski rithöfundurinn Hans Scherfig segir í einni bóka sinna að til séu þeir sem skrifi um lífið, svo  hinir sem skrifi um þá sem skrifa um lífið. Þá megi ekki gleyma þeim sem lifa lífinu. Páll Baldvin Baldvinsson  hefur sérhæft sig í kategóríu tvö. Hann birtist þjóðinni fyrst og fremst sem sá sem fjallar um  þá sem skrifa um lífið. Sannast sagna finnst mér oft gaman að hlusta á Pál Baldvin, til dæmis í Kilju Egils Helgasonar en sá þáttur er í uppáhaldi hjá mér. Þar er Páll Baldvin fastagestur og oft með skemmtilegar vangaveltur um bókmenntir. Þess vegna þótti mér heldur miður þegar hann sá ástæðu til að gefa mér hrapalega falleinkunn fyrir framgöngu mína í ...

6. Desember 2008

KJÓSUM UM NATÓ

nato animate
...Nú er blessunarlega mikið rætt um mikilvægi lýðræðisins.  Þannig eigi að láta þjóðina skera úr um það í atkvæðagreiðslu hvort halda skuli með Ísland inn í Evrópusambandið eða standa utan þess. Ég er andstæðingur aðildar að Evrópusambandinu og hefði reyndar aldrei viljað að við undirgengjumst EES skilmálana á sínum tíma. Á hinn bóginn tel ég einu réttu leiðina til að útkljá deilumál af þessari stærðargráðu vera þá að skjóta þeim undir þjóðaratkvæði. Hvers vegna ekki aðildina ð NATÓ? Mér finnst liggja í ...

4. Desember 2008

KRAFAN ER LÝĐRĆĐI

Birtist í DV 03.12.08.
...Hinn stjórnarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, hefur talsverða æfingu í að vanvirða lýðræðið. Ef eitthvað hefur einkennt valdatíma Sjálfstæðisflokksins allar götur síðan 1991, þá er það ofríki. Þannig hefur einkavæðing og stuðningur Íslands við stríðsrekstur heimsvelda einkennst af því að ákvarðanir hafa verið á hendi fárra einstaklinga sem farið hafa sínu fram á bak við lokuð tjöld. Ef sala Landssímans hefði verið borin undir þjóðaratkvæðagreiðslu ættum við hann ennþá. Ef stuðningur við Íraksstríðið hefði verið borinn undir þjóðaratkvæði hefði Ísland aldrei verið sett í flokk „viljugra" þjóða, en það var vinnuheitið sem notað var um undirgefnustu stuðningsþjóðir Bush og Blairs í Íraksstríðinu. Á sínum tíma skrifuðu tugþúsundir manna undir ákall um þjóðaratkvæðagreiðslu um EES-samninginn. Sú krafa var hunsuð af Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki sem sátu saman ...


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta