Annađ
30. Nóvember 2008
AUĐVITAĐ KJÓSUM VIĐ UM EVRÓPUSAMBANDIĐ

...Þegar lýðræðið truflar valdhafa þá eiga þeir að víkja. Lýðræðisleg niðurstaða á að ráða - í öllum málum. Líka um Evrópusambandið. Að sjálfsögðu. Einhliða áróður hagsmunaafla um Evrópusambandsaðild er farinn að þvælast fyrir upplýstri umræðu og ákvarðanatöku um framtíðina á Íslandi. Þá er bara ein leið fær. Við kjósum um hana. Hvað sem líður efasemdum mínum um ESB-aðild - sem reyndar fara vaxandi - er ég eindregið á því, að málið þurfi að fá lýðræðislega niðurstöðu. Forræðishyggja þeirra sem ekki treystu þjóðinni til að kjósa um EES-samninginn, og einhliða áróðurinn sem alla tíð hefur fylgt þeim gjörningi eins og öðru, verður að vera liðinn undir lok. Ef það er eitthvað sem þarf að treysta í íslensku samfélagi þá er það ...
28. Nóvember 2008
NIĐUR MEĐ VEXTINA!
Birtist í DV 18.11.08.
...Ég hef flutt frumvarp á þingi um að bann verði lagt við því að hafa lán í senn verðtryggð og með breytilegum vöxtum. Enn sem komið er hefur það ekki fengið góðar undirtektir. Spennandi verður að sjá hver verða örlög frumvarps sem lagt var fram á þingi í vikunni til varnar lántakendum. Þar er kveðið á um bann við því að lagðir séu hærri vextir ofan á verðtryggð lán en sem nemur 2%. Ég minnist þess þegar verðtrygging var tekin upp fyrir nærri þremur áratugum að þáverandi Seðlabankastjóri, Jóhannes Nordal, sagði að vextir á verðtryggðum lánum ættu aldrei að vera meiri en nemur þessu hlutfalli. Ungur maður sem þá var að hasla sér völl í fjármálalífinu með stofnun fyrirtækisins Kaupþings tók þá mjög í sama streng. Sá maður heitir Pétur H. Blöndal og er nú formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis. Fróðlegt verður að sjá hvort hann er enn...
27. Nóvember 2008
GEIR OG INGIBJÖRG MEĐ NÝJA SÉRRÉTTINDAÚTGÁFU
Birtist í Morgunblaðinu 26.11.08.
Það var lítil reisn yfir því af hálfu oddvita ríkisstjórnarflokkanna að velja Þjóðmenningarhús Íslands til að kynna nýja sérréttindaútgáfu af eftirlaunalögunum illræmdu. Allar götur frá því ríkisstjórnin var mynduð hefur verið beðið eftir því að ríkisstjórnin stæði við fyrirheit í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um breytingu á þessum lögum. En aldrei kom frumvarpið. Í 20 mánuði hefur þjóðin beðið eftir því að ríkisstjórnin mannaði sig upp í að afnema eigin sérréttindi. Nú þegar lagabreytingin er kynnt kemur fram að ráðherrarnir tíma ekki að draga úr eigin forréttindum meira en svo að áfram verða þeir með ...
24. Nóvember 2008
MORGUNBLAĐIĐ OG RÍKISSJÓNVARPIĐ BRUGĐUST

Ósköp var dapurlegt að lesa laugardagsútgáfu Morgunblaðsins og verða vitni að því hvernig blaðið reyndi að draga ríkisstjórnina að landi í eftirlaunamálinu. Tilefnið var fréttamannafundur þeirra Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um fyrirhugaðar breytingar á eftirlaunalögunum svokölluðu. Áfram ætla ráðherrar sér helmingi hærri lífeyrisávinnslu en best gerist hjá almennum starfsmönnum ríkisins! Morgunblaðið flennir hins vegar yfir forsíðu: Ekki sömu sérkjör og á innsíðu er fyrirsögnin ...Morgunblaðið og reyndar einnig fréttastofa Sjónvarps brugðust í þessu máli. Það er ekki í fyrsta sinn sem fréttastofa Sjónvarpsins bregst þegar þessi sérréttindalög eru annars vegar. Það er eins og ...
23. Nóvember 2008
GÓĐ FJÖLMIĐLAUMRĆĐA Í DAG

Hlutverk fjölmiðla er af tvennum toga: Í fyrsta lagi að upplýsa. Einsog Agnes Bragadóttir gerir í Mogganum í dag. Jón Ásgeir var ekki ýkja sannfærandi í fréttum Sjónvarpsins þar sem hann var beðinn um að svara fyrir tugmilljarða lánasukk. Hann sagði að þörf væri á að kanna hvernig fjölmiðill hefði fengið aðgang að lánabók Glitnis! Er það svo? Að málið snúist um leynd og leka? Auðvitað á almenningur rétt á öllum upplýsingum, sjá allar lánabækur, allar tilfærslur. Er það ekki almenningur - við öll - sem eigum að borga? ... Í öðru lagi eiga fjölmiðlar að leiða fram gagnrýnin sjónarmið. Það heppnaðist vel í Silfri Egils í dag. Margs urðu áhorfendur vísari. Sumum sjónarmiðum sammála, öðrum ekki. Einsog gengur. Gaman að sjá ný andlit. Hóphyggja undangenginna ára er...
20. Nóvember 2008
NÝJUM VEFMIĐLI ÓSKAĐ VELFARNAĐAR

Það er fagnaðarefni að nýr vefmiðill skuli kominn til sögunnar smugan.is sem vill „ leggja sitt að mörkum til lýðræðislegrar umræðu með því að veita þeim opinn vettvang sem ekki hafa átt greiðan aðgang að fjölmiðlum hingað til. Smugan vill vera róttækur málsvari fólksins í landinu þegar góð ráð eru dýr." Ritsjórinn er ekki af verri endanum, Björg Eva Erlendsdóttir, ein vinsælasta fréttakona landsins og tvímælalaust í fremstu röð íslenskra fréttamanna. Björg Eva hefur langa reynslu að baki á RÚV, 24 stundum og fleiri fjölmiðlum og nýtur trausts fyrir vönduð...
15. Nóvember 2008
UM FRÉTTABRÉF SÍĐUNNAR

Nokkuð er um að fólk, sem hefur óskað eftir því að fá send reglulega fréttabréf mín, fái þau ekki. Ég vil af þessu tilefni hvetja hlutaðeigandi að skrá sig að nýju. Það má gera í til þess gerðum reit hér til hliðar. Þess má geta að slíkt fréttabréf var sent út í gær. Hafi skráðir viðtakendur ekki fengið bréfið hvet ég þá til að skrá sig að nýju og að sjálfsögðu alla þá aðra sem áhuga hafa á að fá þessi bréf send sjálfkrafa.
14. Nóvember 2008
JÓN ÁSGEIR, LÁNSTRAUST HF OG BANAKALEYNDIN

...Kröfur Jóns Ásgeirs hljóta að vekja ýmsar áleitnar spurningar. Ef það er rangt að veita upplýsingar um lán til handa manni sem kaupir fjölmiðla í heilu landi, hvað mega þeir þá segja, sem lenda í vanskilum og bankarnir afhenda fyrirtækjum á borð við Lánstraust og öðrum aðilum, sem gera sér blankheit manna að lifibrauði, upplýsingar um? Er í lagi að veita upplýsingar um fólk sem ... Hverra hagsmuna skyldi Björgvin, bankamálaráðherra ætla að gæta, smáskuldarans eða stórskuldarans? Eða kannski almennings? Ef hann ætlar að passa upp á almannahag þarf hann að sjá til þess að upplýst verði um öll hagsmunatengsl sem máli skipta í viðskiptalífi og stjórnmálum. Er þá ekki aðeins...
13. Nóvember 2008
ŢAKKIR TIL FĆREYINGA

...Ég kom þökkum BSRB á framfæri við sendiherra Færeyja á Íslandi í upphafi málstofunnar og var kveðjunni fylgt eftir með dúndrandi lófataki fundarmanna. Ég leyfði mér að vísa í orðsendingu frá Gunnleivi Dalsgard, fyrrum formanni Starfsmannafélags Færeyja til mín með tilvitnun í hvatningarkveðskap færeyskan.
Hlýhugur Íslendinga í garð Færeyja er mikill. Það mátti meðal annars finna á baráttufundinum á Austurvelli síðastliðinn laugardag. Þegar vikið var að rausnarskap Færeyinga var ákaft klappað. Hér á síðunni hafa einnig birst góðar kveðjur í bundnu og óbundnu máli, samanber þessa kveðju frá Kristjáni Hreinssyni, skáldi...
12. Nóvember 2008
REYNSLA FĆREYINGA OG FINNA RĆDD HJÁ BSRB

...Hún sagði að sumt hefði þar verið vel gert en miklu fleiri væru vítin til að varast. Og eru Finnar lausir við kreppu? Það færi eftir því hvaða mælikvarða væri beitt. Horfðum við til hagvaxtar eða atvinnuleysis, sem enn væri um 8% í Finnlandi? Þannig byggju margir Finnar - og þar með finnskt samfélag - enn við þrengingar, efnahagslegar og félagslegar. Sigurbjörg kvaðst líta svo á að það væri glæpur að slá á vinnandi hönd. Þetta þótti mér vera gullkorn eins og svo margt annað sem frá henni kom á þessari málstofu. Gunvör Balle benti á margt athyglisvert úr reynslu Færeyinga í kreppunni, sem reið yfir Færeyjar um svipað leyti og kreppti að hjá Finnum. Gunnvör sagði að...
10. Nóvember 2008
YFIRVEGUĐ LÖGREGLA

...Hitt má ekki gleymast að segja frá ræðuhöldunum og boðskapnum sem þar er að finna. Hann þyngist og er mjög á einn veg: Ríkisstjórnin víki og efnt verði til kosninga. Strax. Þetta er tónninn... Hvers vegna fáum við ekki að heyra hann í fjölmiðlum?... Skipuleggjandi laugardagsfundanna, Hörður Torfason, segir þá vera friðsamlega kröfu um breytingar...Haft er eftir Ingvari Þórissyni, kvikmyndagerðarmanni, í Morgunblaðinu í dag, að hann hafi haft góða yfirsýn yfir það sem gerðist og að lögreglan hafi brugðist „hárrétt við". Ekki látið „æsa sig upp í neitt." Þetta var líka mín tilfinning þegar ég hlýddi á viðtal sem tekið var við Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjón, sem ...
3. Nóvember 2008
ÚR MENNINGARFJÁRSJÓĐI
Á þrengingartímum er hollt að leita í menningarfjársjóði þjóðarinnar. Þar er að finna margar perlur.Í inngangi að Andvökum Stephans G. Stephanssonar frá árinu 1939, skrifar fræðimaðurinn og ritsnillingurinn Sigurður Nordal formála, sem síðar var gefinn út í sjálfstæðu riti. Þar víkur hann óbeint að hildarleiknum sem þá var fyrirsjáanlegur, heimsstyrjöldinni síðari. Sigurður ræðir hugsjónir Klettafjallaskáldsins og minnir á þau gildi i mannlífinu sem dýrmætust eru. Eftirfarandi eru niðurlagsorðin í formálanum frá 1939 en þau er ekki að finna í útgáfu Helgafells frá 1959. Örfáar línur en mikil viska. Hvert orð á erindi við samtímann...
1. Nóvember 2008
MĆLI MEĐ SALNUM Í DAG - EFTIR ÚTIFUNDINN Á AUSTURVELLI

Á blaðsíðu 44 í Morgunblaðinu - menningarsíðunni - segir frá sérstakri menningarsamkomu í Salnum í Kópavogi í dag. Yfirskriftin er Suðrænir tónar, blær að austan og gamli Bach. Þarna leggja þau saman frændsystkin, Ögmundur Þór Jóhannesson, gítarleikari og frændkonur hans tvær, gler- og textíl listakonurnar Sigrún og Ólöf Einarsdætur. ...Ég hef áður sótt tónleika með gítarsnillingnum unga og hrifist af leikni hans. Mæti að sjálfsögðu í dag. Fer í Kópavoginn að loknum útifundi. Mæli með eftirfarandi dagskrá...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












