Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

27. Október 2008

OPIĐ FUNDARBOĐ TIL RÁĐAMANNA ŢJÓĐARINNAR


Í kvöld klukkan 20 gangast tveir einstaklingar, þeir Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og Davíð Á Stefánsson, bókmenntafræðingur, fyrir opnum fundi í Iðnó í Reykjavík. Á fundinum gefst fólki kostur á að viðra skoðanir sínar og leita svara. Ávörp verða flutt  en ræðumenn eru Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður, Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur.  Eftirfarandi er sjáft fundarboðið...

25. Október 2008

KRÖFTUGUR EINAR MÁR


Krafa útifundar á Austurvelli í dag gekk út á að rjúfa þögn ráðamanna og aflétta þeirri leynd sem hvílir yfir samningaviðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Fundurinn var mjög öflugur. Talað var tæpitungulaust. Greinilega um of fyrir fréttastofur ljósvakamiðlanna, RÚV ohf og Stöð 2. Sjónvarpsstöðvarnar sýndu ekkert frá fundinum að því er ég best sá! Þær sýndu hins vegar frá fundi sem síðar um daginn var haldinn við Ráðherrabústaðinn...Við Ráðherrabústaðinn var seðlabankastjóri hrópaður niður. Á Austurvelli fékk allur mannskapurinn go´moren. Líka ríkisstjórnin. Sannast sagna skil ég ekki hvað henni hefur verið hlíft í umræðunni...Svo var það Einar Már Guðmundsson, rithöfundur sem hreinlega fór á kostum. Hann flutti sannkallaða eldmessu. Skemmtilega, beitta, pólitíska, sanna.  Einar Már sýndi að ritsnillingar eiga ekki bara erindi inn á blaðsíður bóka sinna heldur inn í kviku samtímans á ...

23. Október 2008

UMBOĐSLAUS RÍKISSTJÓRN

Birtist í DV 22.10.08.
DV...Vandinn er sá að lausn á bráðavandanum er háður lausn á langtímavandanum. Samhengið er þetta: Við þurfum að taka erlend lán til að hjól viðskipta, þar með á gjaldeyrismarkaði geti farið að snúast að nýju. Hér kemur Aljóðagjaldeyrissjóðurinn inn í myndina. Hans hlutverk er meðal annars að greiða úr gjaldeyriskrísum í heiminum en fyrst og síðast lítur hann á sig sem eins konar heimslögreglu kapítalismans.  Undanfarna daga hefur hann notað tímann vel. Allir þeir sem gefið hafa til kynna að þeir vildu ...

21. Október 2008

VERULEIKAFIRRINGIN OG AFVÖTNUNIN


Forsíðufréttin í Fréttablaðinu á sunnudag var í sjálfu sér ágæt. Þar segir að tekjur ríkisins af starfsemi stærstu bankanna í ár verði að öllum líkindum innan við 12 milljarðar en hafi numið nærri 37 milljörðum í fyrra. Ríkið verði þannig af 25 milljörðum...En örlar hér á veruleikafirringu?....Illt er að þurfa að sitja undir mási og dæsi leiðsögumanna okkar út í skuldafenið með aðfinnslur um hvað aðrir gerðu rangt. Þau segja það til dæmis hafa verið hneykslanlegt að...

21. Október 2008

KEĐJUHANDSAL GEGN SKATTBORGARANUM


Eitt mesta sjónarspilið sem fjárglæfrakapitalistarnir hafa verið látnir komast upp með er húsaleigukapallinn. Hann gengur út á það að pólitískir handlangarar á Alþingi og í sveitarstjórnum sjá til þess að opinberar stofnanir selja húsnæði sitt en leigja þess í stað hjá húseigendum sem hafa góðan arð upp úr vösum skattgreiðenda fyrir vikið. Síðast í sumar fylgdumst við með hugmyndum Listháskólans að komast í slíka vist hjá prívatmönnum við Laugaveginn í Reykjavík. ...Peningamennirnir græða skattborgarinn blæðir. Jón Torfason skrifar umhugsunarverða grein í Frjálsa penna hér á síðunni um smíði Tónlistarhússins í Reykjavík  sem ....

19. Október 2008

ER ŢJÓĐIN TILBÚIN AĐ BORGA?


...Samfylkingin hefur löngum verið veik fyrir fínu fólki frá útlöndum. Í fréttum í kvöld kom enda  í ljós að hún er þegar komin á hnén. Og Geir á leiðinni. Utan Ráðherrabústaðarins spyrja menn hins vegar hvaða umboð fólk þar innandyra hafi til að leggja á komandi kynslóðir níðþungan skuldaklafa. Hverju hefur Árni Mathiesen fjármálaráðherra  lofað fyrir okkar hönd? Er hann viss um að þjóðin sé tilbúin að borga? Heldur ríkisstjórnin að hún hafi þjóðina í vasanum? Getur verið að í reynd hafi ríkisstjórnin glatað umboði til að gera það sem hún nú hefur á prjónunum? Hvað ef fólkið hreinlega neitar að borga? Ég ráðlegg ráðandi stjórnmálamönnum að fara að hugsa sinn gang. Ég ráðlegg líka veruleikafirrtu bankaliði  að spara svolítið vandlætinguna yfir því að hafa ekki fengið frekari uppbakningu og stuðning af ...

16. Október 2008

NÚ ŢARF AĐ HUGA AĐ ÍSLENSKUM ALMANNAHAG

Birtist í Morgunblaðinu 15.10.08.
MBL  - Logo...Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er ekki bara lögregla alþjóðauðvaldsins og mætir jafnan til leiks þegar þjóðir komast í þrot til að tryggja að almenningur standi skil gagnvart alþjóðlegu vogunarfjármagni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur líka reynst frjálshyggjusinnuðum stjórnvöldum dýrmætt skálkaskjól til að framkvæma það sem óvinsælt er með þjóðum...Og sannast sagna finnst mér það ekki góð tilhugsun að þeir Árni Mathiesen fjármálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra skuli í þann veginn að setjast að samningaborði um framtíð heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Og ekki treysti ég ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar til þess að semja um framtíð orkugeirans við fulltrúa sjóðsins...

15. Október 2008

ALŢJÓĐAGJALDEYRISSJÓĐURINN SAMUR VIĐ SIG


Merkilegt hve margir í stjórnarmeirihlutanum á Alþingi er umhugað um að fá fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að sjúkrabeði íslenska fjármálakerfisins með læknisráð og medesín.....Vissulega er það fullkomlega skiljanlegt að Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skuli vera áhugasamur um að fá Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hingað til lands sér til fulltingis...Þegar Vilhjálmi var bent á - af þessu tilefni - að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefðu aldrei haft neitt að athuga við þotukaup eða annan ferðakostnað íslenska auðmannaaðalsins og meira að segja vegsamað allt einkavædda bruðlið hér á landi í bak og fyrir og ekkert haft annað til málanna að leggja en að óska eftir meiri einkavæðingu og hærri vöxtum - þá svaraði Vilhjálmur því til að nú væru ....

12. Október 2008

HUGSAĐ TIL BAKKAVARAR


...Bakkavararbræður hafa byggt fyrirtæki sitt upp frá grunni af mikilli ósérhlífni og elju og þeir þekkja mótbyr og erfiðleika af eigin raun. Það vakti athygli mína þegar ég fékk tækifæri til að hitta þá Lýð og Ágúst Guðmundssyni að máli í London fyrir nokkrum misserum og kynnast starfsemi á þeirra vegum, að þar voru menn með ábyrga afstöðu til meðeigenda sinna, sem á meðal annarra voru íslenskir lífeyrissjóðir...Ábyrgð Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands sem gerði ólöglega aðför að íslenskum bönkum í Bretlandi í síðustu viku, hefur stórskert möguleika fyrirtækja á borð við Bakkavör að komast lífs af úr því gerningarveðri sem nú gengur yfir. Skömm bresku ríkisstjórnarinnar er mikil. Þeim mun ánægjulegra yrði ef Bakkavör og önnur flaggskip í íslenskum atvinnurekstri erlendis komast lífs af....

12. Október 2008

INNSÝN Í HRĆGAMMAKAPÍTALISMANN OG ÁBENDINGAR ÓLÍNU


Illræmdur ...auðmaður, Philip Green er mættur til Íslands. Hann vill að íslenska ríkið selji sér veð Baugs í Bretlandi á gjafaprís. Látið er að því liggja að Brown forsætisráðherra Breta  muni beita sér fyrir því að allar eigur sem rekja megi til íslensks ríkisfangs verði  frystar á morgun....Ég er sammála því að andvaraleysi í þessu efni er stórhættulegt. Hver dagur  getur skipt sköpum. Það er fáránlegur barnaskapur ...að fara ekki þegar í stað í kortlagningu á eignum og flutningum á eignum landa á milli og frá einum auðmannavasa í annan.  Þetta þarf að kortleggja - því hér er um að ræða eignir okkar. Hvers vegna okkar? Vegna þess að við, börnin okkar og barnabörnin, VERÐUM LÁTIN BORGA FYRIR ÞÆR. Nú stendur stríðið um hvort stíla eigi allan reikninginn á okkur eða hvort erlendir áhættufjárfestar þurfi að taka sinn skell ... Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn passar upp á auðmenn allra landa....

11. Október 2008

EKKI MEIR HALLDÓR!


...Stjórnvöld höll undir auðmagnið vilja yfirleitt gjarnan fá Alþóðagjaldeyrissjóðinn að borði því í ráðgjöf hans fá þau skálkaskjól til að fara sínu fram. „Við erum bara að fara að ráðgjöf og skilyrðum sem okkur eru sett," er þá viðkvæðið. Um þetta segir Halldór Ásgrímsson: „Ég tel nauðsynlegt að leita til sjóðsins við þessar aðstæður enda er það hlutverk hans að koma til hjálpar. Menn kunna að óttast að hann setji ýmis skilyrði, sem hann mun vissulega gera, en það þarf hvort er eð að taka margar ákvarðanir sem munu leiða okkur inn í betri framtíð. Það er betra að hafa aðstoð við það." Þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og menn með þessa afstöðu leggja saman er ekki við góðu að búast.  En við Halldór Ásgrímsson vil ég segja...

10. Október 2008

KREPPAN GĆGIST Á GLUGGANN


...Pétur var baráttumaður. Í brjósti hans brann hugsjónaeldur sem vakti von og hvatti menn til dáða: En láttu ekki bugast, lækning þér búin er, ef leitarðu sannleikans, þorir að leggja við eyra. Og þegar baráttan hefur skilað okkur samfélagi sem breytt hefur verið til hins betra, þá mun sólin fagna okkur og verna: Og nú skaltu taka upp nýtt og betra lag, svo njóti þess allir, sem jörðin af unaði geymir. Þá heilsar þér fagnandi sólin um sumardag...

10. Október 2008

STARFSFÓLK BANKANNA SVIKIĐ! HVAĐ SEGIR JÓHANNA? HVAĐ SEGIR BJÖRGVIN? HVAĐ SEGIR ÁRNI? HVAĐ SEGIR GEIR?


Þegar ríkisstjórnin kynnti lagafrumvarp sem heimilaði inngrip ríkisvaldsins í bankana var sterklega gefið til kynna af hálfu ráðherra að fólki yrði almennt ekki sagt upp störfum og að það héldi meira að segja réttindum sínum. Þegar spurt var um hvers vegna lög um aðilaskipti ættu ekki að gilda var að skilja að þetta væri til þess að ríkisvaldið yrði ekki skuldbundið að varðveita siðlausa ofurlaunasamninga. Annað ætti við um almennt starfsfólk. Þetta hefur síðan verið stafað ofan í þjóðina og þá sérstaklega starfsfólk bankanna. Þið hafið allt ykkar á þurru var því sagt.
Hvað gerist svo í morgun þrátt fyrir öll þessi fyrirheit og heitstrengingar?
Í Landsbanka voru mörg hundruð starfsmen reknir...

9. Október 2008

MÁL AĐ LINNI

Birtist í DV 08.10.08.
DVÍ þann mund sem samþykkt var á Alþingi lagafrumvarp um yfirtöku ríkisins á tveimur bankastofnunum sem komnar voru í þrot og á góðri leið með að setja þjóðarbúið á hliðina, var dreift á borð þingmanna gömlum  „góðkunningja" þingsins. Hér er um að ræða þingsályktunartillögu frá fjölmennri sveit Sjálfstæðismanna ... Þingmálið er byggt á stefnu  Verslunarráðsins sáluga sem nú heitir Viðskiptaráð. Í greinargerð þingmálsins...eru rakin fjölmörg dæmi um rekstur sem færa má út á markað auk þess sem bent er á mikilvæga sigra frá liðnum árum: „Fjölmörg fyrirtæki á vegum ríkisins hafa verið einkavædd og má þar m.a. nefna bankastarfsemi ....".

7. Október 2008

VIĐ BETLISTAF


...Þrátt fyrir þetta hefur ekki skapast neyð á Íslandi á borð við þá sem snauðar þjóðir búa við. Höfum þetta hugfast. Ekki síst áður en fulltrúar þjóðarinnar skekja betlistafinn í reiði framan í þá sem neita að ausa í okkur peningum. Þeir sem neitað hafa að afhenda okkur lausnarfé eru sagðir óverðugir vináttu okkar og sagt að nú verði leitað nýrra vina! Alvöru vina sem borga okkur fyrir okkar eigin mistök og misgjörðir. Ég frábið að láta taka okkur niður  á hnén á þann hátt sem gert var í dag frammi fyrir heimspressunni. Íslendingar hafa látið stjórnast af gróðavon, mært útrásarliðið, verið tilbúnir að hagnast á snauðum þjóðum ef svo hefur hagað til og ekki hreyft gagnrýni að neinu marki þegar fátækar þjóðir hafa verið beittar ofbeldi af „okkar" fólki.  Ekki ætla ég þó að taka það á mig að hafa setið þegjandi undir slíku...

4. Október 2008

HORTUGIR SÖKUDÓLGAR


...En hverjir vilja að við ræðum sem minnst um sökudólga? Það eru að sjálfsögðu sökudólgarnir sjálfir. Þeir sem opnuðu þjóðfélagið fyrir óheftum kapítalisma og síðan þeir sem sett hafa okkur á spil með gambli og braski. Þessir aðilar eru að vísu ekki alveg fríir sjálfir af því að vilja ekki finna sökudólga. Þeir benda á Seðlabankann sem fólið eða hið „illa ríki" sem að sjálfsögðu erum við, þjóðin, gæti verið að hagnast á yfirtöku „eigna" þeirra. Á þá lund mæltist stóreignamanni, handhafa gjafakvóta í sjónvarpsviðtali í vikunni.  Og félagi og samverkamaður hans með milljarðatuga gróða í rassvasanum frá liðnum árum, tók í sama streng og sagði að veruleg hætta væri á því að ríkið væri að hagnast á yfirtöku eigna þeirra. Eignin var Glitnir. Kominn að fótum fram og við það - ásamt öðrum fjárfestingar-monsterum - að taka okkur öll með í fallinu...

4. Október 2008

BISNISMENN Á HVÍTUM SLOPPUM

Birtist í Morgunblaðinu 03.10.08.
MBL  - LogoJóhannes Kári Kristinsson, einn eigenda læknastöðvarinnar Sjónlags, skrifaði mér opið bréf í Morgunblaðið. Jóhannes er ekki bara eigandi fyrirtækisins, hann er einnig starfsmaður og sinnir augnlækningum enda titlar hann sig augnlækni undir greininni. Vandinn í samræðum við menn á borð við Jóhannes Kára er að erfitt getur verið að greina hvort maður á í orðræðu við lækni eða bisnissmann á hvítum sloppi; þar í ofanálag með pólitíska stefnuskrá. Jóhannes á sjálfur í slíkum vanda ella hefðu skírskotanir til Stalíns heitins varla dúkkað upp í grein um augnlækningar nútímans... Undir þetta tekur Jóhannes Kári; skilur ekkert í gagnrýninni því skattborgarinn borgi brúsann, af hverju ættu sjúklingar eiginlega að hafa áhyggjur? Jóhannes Kári er ekki einn um þessi sjónarmið. Hvaða fyrirtæki skyldi fúlsa við því að hafa allt sitt á þurru með greiðslum úr ríkissjóði...!

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta