Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

29. Október 2007

FORSETAEMBÆTTIÐ – TIL ÚTRÁSAR EÐA HEIMABRÚKS?


...Þurfa Íslendingar ekki að huga að samfélagslegri ábyrgð sinni víðar en hér á landi? Hlýtur það ekki að verða forseta Íslands til umhugsunar þegar þotuliðið minnir okkur á einu sinni enn að því komi Ísland ekki við að öðru leyti en því að notast megi við það í fjárfestingarbraski! Ég sá það haft eftir forseta Íslands að hann taki ekki þátt í opinberri umræðu um ferðir sínar og ferðamáta. Ég tel aftir á móti að hann eigi að gera það. Ef sá Ólafur Ragnar Grímsson, sem ég þekkti ágætlega, er orðinn feiminn við opinbera umræðu, þá er mér illa brugðið. Að sjálfsögðu á að ræða þessi mál til hlítar, þ.e. til hvers við ætlumst af forsetaembættinu og þá ekki síst samkrull þess við auðmenn, innlenda sem erlenda...

26. Október 2007

BSRB ÁLYKTAR UM ORKUVEITU REYKJAVÍKUR

Stjórn BSRB hefur skorað á borgaryfirvöld í Reykjavík að ógilda þegar í stað samninga um sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy enda ekki rétt að þeim staðið. Auk þess krefst stjórn samtakanna þess að hætt verði við áform um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og kallar eftir breytingum á lögum sem komi í veg fyrir að einkaaðilar eignist náttúruauðlindir Íslands. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag. Þá bendir stjórn BSRB á að Sameinuðu þjóðirnar hvetja nú til samstarfs opinberra veitufyrirtækja, aðallega á sviði vatnsveitna, til að ná megi settum þúsaldarmarkmiðum SÞ sem flest ríki heims og Ísland þar á meðal hafa skuldbundið sig til að vinna að.  Reynslan hefur sýnt að útrás einkafyrirtækja inn á svið samfélagsþjónustunnar hefur almennt haft neikvæðar afleiðingar í för með sér . ...

21. Október 2007

DÆMUM MENN AF VERKUM ÞEIRRA


...Í dag heyrðist nokkuð sérstæð frétt í útvarpi. Hlustendur fengu að heyra að Framsóknarmenn í Skagafirði hefðu ákveðið að beina því til flokks síns og Alþingis að ef þingmenn tækju upp á því að stunda nám jafnframt þingstörfum væri eðlilegt að kalla inn varamenn. Í fréttinni kom fram að þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Magnús Stefánsson hefðu ákveðið að leggja stund á svokallað MBA nám í vetur. Birkir Jón varð til svara fyrir þá félaga og sagði að sú viðhorfsbreyting hefði orðið í samfélaginu og í afstöðu til menntunar að námi ætti í reynd aldrei að ljúka. Símenntun og endurmenntun væri í samræmi við þá hugsun....

17. Október 2007

ENIKAVÆÐINGIN FREISTAR


...Ég spyr, er það krafa og þörf nútúmasamfélags að fjárfestar geri sér menntun ungviðisins og  bágborið heilsufar fólks að féþúfu? Endurspeglar þetta einhver sérstök kvenleg gildi? Hvers vegna reynir þetta fólk ekki sjálft að finna upp eitthvað nýtt í stað þess að troða sér inn í starfsemi sem samfélagið hefur komið sér upp og hefur gengið ágætlega að þróa svo fremi sem fjármunir eru fyrir hendi? "Frumkvöðlarnir" segja að áfram eigi skattborgarinn að borga – þeir ætli hins vegar að tryggja fjárfestum hlutdeild í framlagi hins opinbera í "góðri langtímaarðsemi" einsog það heitir. Í mínum huga er einfaldlega verið að búa til óþarfa milliliði...

16. Október 2007

ER LÝÐHEILSUSTOFNUN HÆTT AÐ SINNA HLUTVERKI SÍNU?


Þórólfur Þórlindsson, nýr forstjóri Lýðheilsustöðvar, og Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður ræddust við í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Tilefnið var frumvarp sem Sigurður Kári er fyrsti flutningsmaður að en það gengur út á að heimila sölu á vínum og bjór í almennum matvöruverslunum. Forstjóri Lýðheilsustofnunar kvaðst þessu ekki fylgjandi "persónulega" en hefði þó skilning á því að við þyrftum að taka mið af alþjóðavæddum heimi og laga okkur að þeim háttum sem viðgengjust annars staðar...Varðandi hina alþjóðlegu aðlögun þá er það nú svo að þróunin er víðast hvar í gagnstæða átt við það sem frjálshyggjudeild Sjálfstæðis/Samfylkingarflokks vill í þessum efnum. Hitt skiptir þó mestu máli þegar kemur að framlagi forstjóra Lýðheilsustofnunar til þessarar umræðu, að honum er ætlað að ...

15. Október 2007

LÍTIÐ GEFIÐ FYRIR LÝÐHEILSU

Hafin er á Alþingi árviss mannréttindabarátta um að koma áfengissölu í matvöruverslanir. Að þessu sinni er það Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem reisir gunnfána baráttufólksins en um þá stöng halda samtals 17 þingmenn, þar á meðal Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar.
Margt umhugsunarvert kom fram við umræðuna í dag. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvaðst þannig vera að berjast fyrir hagsmunum neytenda með flutningi þessa frumvarps og fyrrgreindur fyrsti flutningsmaður, Sigurður Kári, lagði áherslu á í því samhengi, að það hlyti að vera mikið hagræði í því fólgið að geta keypt eina hvítvín hjá fisksalanum um leið og keypt væri í soðið...

14. Október 2007

GUÐFINNA OG SKÖPUNARSAGAN


...Vitræn Hönnun, Intelligent Design
lætur hins vegar betur í eyrum en bókstafstrú og hefur auk þess vísindalegt yfirbragð.  Á undanförnum árum hafa strangtrúarsöfnuðir í Bandaríkjunum og samtök þeim tengd farið mikinn og viljað hnekkja lögmálum í líffræði og jarðfræði, sem ganga í berhögg við sköpunarsögu Biblíunnar.
Þeim hefur orðið talsvert ágengt undir verndarvæng Bush, forseta sem nánast hefur verið strengjabrúða þessara afla...Í Evrópu er farið að gæta þessara tilhneigingar og hafa sköpunarsögumenn að undanförnu stöðugt reynt að færa sig upp á skaftið. Um miðja síðustu viku birtist þessi litla frétt á RÚV: "Ályktun um að varað verði við því að sköpunarkenningin verði kennd sem vísindagrein í hinu opinbera menntakerfi var samþykkt í Evrópuráðinu á fimmtudaginn. Guðfinna Bjarnadóttir, fulltrúi Íslands, greiddi atkvæði gegn ályktuninni. Guðfinna segir að ...

11. Október 2007

VISTVÆNT AÐ VIRKJA GULLFOSS?


...Ekki veit ég hverjir þessir "allir" eru sem Ólafur Jóhann Ólafsson segir að hafi viljað fá erlendan fjárfesti að orkuauðlindum Íslands. Látum það liggja á milli hluta. Staðnæmumst við fjárfestingu í "vistvænni orku" . Ólafur Jóhann segir Íslendinga hafa mikla sérstöðu í þessum geira og standa í fremstu röð í heiminum þegar vistvæn orka er annars vegar. Þetta þykir mér vera klisjukent tal. Að mínu mati er fráleitt að aðgreina orkuframleiðsluna öðrum þáttum. Spyrja þarf um ferlið allt. Til hvers er virkjað og hverju er spillt? Ef virkjað er til þess að framleiða einnota kókdósir úr áli, eða skriðdreka til árása á íraska alþýðu til að hafa af henni olíuauðlindirnar - er það þá vistvæn virkjun ef virkjunin sjálf er ekki...

2. Október 2007

GÓÐ SKILABOÐ FRÁ BESSASTÖÐUM

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti góða ræðu við setningu Alþingis í gær. Orð hans voru í tíma töluð. Hann sagði að við yrðum að hlúa að menningararfi þjóðarinnar ekki aðeins sem þakkargjörð við liðinn tíma, "heldur til þess að við glötum ekki sálu okkar, slítum ekki upp ræturnar í umrótinu sem fylgja mun hinni nýju öld.
Sjálfsmynd og staðfesta íslenskrar þjóðar hvílir einkum á þremur stoðum: 
- Arfleifðinni sem íbúar dreifðra byggða hafa skapað.
- Samkenndinni sem hliðstæð lífskjör festu í sessi.
- Tungumáli sem gaf menningunni ávallt nýjan sköpunarkraft.
Þessi þrenning arfleifðar, samkenndar og tungu á nú í vök að verjast og því áríðandi að hugað sé vel að stefnumótun og ákvörðunum."
Ég finn það að Íslendingar skynja að nú þarf í alvöru að rísa upp til varnar íslenskum menningararfi. Peningamennirnir sem sýsla með sálarlaust silfrið og þjónar þeirra gefa lítið fyrir íslenska tungu og íslenska menningu og þótti mér gott að hlýða á orð forseta lýðveldisins sem ganga...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta