Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

28. Janúar 2007

AÐ HAFA VIÐURVÆRI AF GLÆPUM



...Nýjasta dæmið um útrás landans er þó af allt öðrum toga. Sú útrás snýr að því að nýta sér spilafíknina á alþjóðavísu. Hér á ég við 28,10 % eignarhlut Straums-Burðaráss í Betsson netspilavítinu en vel að merkja þá eru þessir íslensku fjárfestar langstærstu eigendur spilabúllunnar! Þetta kemur mér upp í hugann nú þegar ég sit við norskan sjónvarpsskjá á ferð minni til Noregs. Í auglýsingu sem birtist á milli dagskrárliða er fólk hvatt til að heimsækja heimasíður spilavítisins. Þegar það er gert geta menn valið um ein átta tungumál, þar á meðal ástkæra ylhýra málið. Þegar komið er inn á íslensku síðuna blasir nú aldeilis við gósenland. Þar erum við frædd um að 6 milljón manns taki þátt í pókerspilinu enda sé þetta “frábær skemmtun”. Þarna erum við hvött til að setjast við rúlettuborð með þessum orðum. “Þú leggur undir við látum þig hafa peningana!” Hvílkt kostaboð! Spilavítið lýsir sér nánast sem góðgerðastofnun sem lætur fé af hendi rakna. Auðvitað er þessu þveröfugt farið. Hér er um að ræða frumstæða glæpastarfsemi sem gerir út á...

22. Janúar 2007

UM ORÐIN OG GILDI UMRÆÐUNNAR

...Ekki man ég alveg hvað Egill Helgason sagði í sunnudagsleiðara sínum á Stöð 2. Mér fannst það þó vera eitthvað í þá veru sem Ólafur Teitur predikaði nema hvað Egill virðist helst óttast að of vel kunni að verða gert við Ríkisútvarpið ohf! Þá fannst honum ótækt hve ýmsir þingmenn nýttu málfrelsi sitt rýmilega. Kvaðst Egill eiga erfitt með að muna hvað menn segðu á þingi almennt og því meira sem menn töluðu á þeim bæ, því blankari yrði hann um málavexti. Maður gat ekki annað en fundið til með þessum ágæta stjórnanda Silfursins, þessum orðsins manni; að hann skyldi játa það frammi fyrir alþjóð að hann nánast lamaðist við að heyra aðra tala; maður sem sjálfur hefur atvinnu af því að ræða málin, fá til sín fólk til að tala og skiptast á skoðunum um þjóðfélagsmál...Og í framhaldinu er því rökrétt að spyrja: Getur verið að þessir menn séu ekki alveg fríir við fordóma, getur verið að blaðamannakokteill þeirra Ólafs Teits og Egils sé blandaður einhverjum hagsmunum? Ólafur Teitur er til að mynda því póltíska marki brenndur að vera almennt á móti öllu sem tengist ríkinu og ríkisrekstri. Og Egill Helgason virðist mér heldur ekkert gefinn fyrir slíkt, allra síst ef ríkisreksturinn stríðir gegn hagsmunum hans eigin vinnustaðar...

20. Janúar 2007

HVORT ER MIKILVÆGARA PENINGAR EÐA FÓLK?

Birtist í DV 19.01.07
...Síðan er hitt: Hér eftir verður að gera þá kröfu að þá aðeins verði fjármunum veitt til meðferðaraðila eftir að áður hefur farið fram ítarleg rannsókn á hæfi þeirra og fagmennsku til að sinna slíkum verkefnum. Við megum ekki gleyma því að um er að ræða meðferð fyrir sársjúkt fólk, einstaklinga sem eru í mikilli neyð, háðir vímuefnum og oft án húsnæðis. Þetta fólk er varnarlaust gagnvart umhverfi sínu. Það er ábyrgðarhluti hvernig að því er staðið að fela það í hendur stofnunum eða samtökum.
Enda þótt kristilegir söfnuðir á borð við Samhjálp og aðra ámóta aðila hafi unnið þarft starf þá er kominn tími til að spyrja hvort það sé rétt að fela trúarsöfnuðum að annast á vegum hins opinbera meðferð vímuefnasjúklinga. Finnst okkur rétt að...

19. Janúar 2007

ROFIN SÁTT UM RÚV ?

...Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur leitað eftir málamiðlun með tvennum hætti. Í fyrsta lagi hefur það verið boðið að gerð yrði lágmarksbreyting á lagarammanum um Ríkisútvarpið en hinu frestað sem grundvallarágreiningur er um. Í öðru lagi hefur verið sett fram það tilboð að greitt yrði fyrir því að frumvarpið kæmi skjótt til afgreiðslu á þingi en lögin öðluðust hins vegar ekki gildi fyrr en að afloknum kosningum. Þar með gæfist nýrri ríkisstjórn og nýjum stjórnarmeirihluta ráðrúm til að endurskoða málið sem þá kæmi einnig til umræðu í kosningabaráttunni. Þessi ákvörðun fengi þannig lýðræðislegt vægi. Ríkisstjórnin hefur til þessa slegið á allar tilraunir til samkomulags og sátta og hamrar á því að...

16. Janúar 2007

FYLGIST MEÐ AFSTÖÐU ALÞINGISMANNA TIL RÚV !

Birtist í Morgunblaðinu 15.01.07
...Staðhæfing um að hlutafélagavæðing Ríkisútvarpsins sé skref til framfara er loddaraskapur af verstu gerð. Þetta er aðferð til að ræna fólk réttindum, koma almannastofnun í skjól undan eðlilegu aðhaldi og draga úr lýðræðislegri aðkomu. Hlutafélagavæðingin byggist á botnlausri trú á markaðshyggju og ágæti forstjóravalds....

15. Janúar 2007

ER ÞETTA ÞAÐ SEM KOMA SKAL: ÞRÖNG PÓLITÍSK HAGSMUNAGÆSLA ?

...Ég endurtek að Páll Magnússon má að sjálfsögðu tjá sig um sínar skoðanir. En til hans eru gerðar kröfur. Mér þykir hann ekki rísa undir lágmarkskröfum sem gera þarf til útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins með Morgunblaðsgrein sinni í dag. Er þetta það sem koma skal í málflutningi frá RÚV o.h.f. ? Viljum við að þar ráði ríkjum harðpólitískur útvarpsstjóri ríkisstjórnarinnar?
Við skulum ekki gleyma því að ein megingagnrýnin á frumvarp ríkisstjórnarinnar er sú að yfir stofnunina er ætlunin að setja stjórn sem ríkisstjórnarmeirihlutinn kýs. Þessi stjórn skal kosin árlega þannig að aldrei verði langt í taumnum. Hin pólitíska stjórn ræður síðan (og rekur eftir atvikum) útvarpsstjórann, einvaldinn innan veggja RÚV. Er líklegt að þetta fyrirkomulag stuðli að yfirvegaðri og málefnalegri umfjöllun fréttamanna og dagskrárgerðarmanna RÚV o.h.f.? Vildi útvarpsstjóri ef til vill sýna fordæmi með skrifum sínum...

11. Janúar 2007

MINNISBÓK KRISTÍNAR

... Þannig er ástæða til að mæla með "Minnisbók" Kristínar Halldórsdóttur, fyrrverandi alþingiskonu og framkvæmdastjóra VG en þessa "bók" er að finna á vefsíðu hennar: www.kristin.is.  Í nýlegum pistlum fjallar Kristín Halldórsdóttir um nýjan bæjarstjóra á Akureyri, fyrirhugað álver í Helguvík og komandi alþingiskosningar. Þar veltir hún vöngum yfir því hvort eldri borgarar svo og Framtíðarlandið komi til með að bjóða fram í kosningunum í vor. Þar segir m.a.:... Þessa dagana og væntanlega næstu vikur er áhugaverðast að sjá hvernig málin þróast hjá eldri borgurum og ekki síður hjá Framtíðarlandinu. Talsverður áhugi virðist á framboði hjá hvorum tveggja hópum, en líka mikil andstaða og alls óvíst hvað verður ofan á. Minni spenna er þó í kringum ...

11. Janúar 2007

ÆTLAR FRAMSÓKN VIRKILEGA AÐ SVÍKJA RÍKISÚTVARPIÐ?

Birtist í Blaðinu 10.01.07.
Í Blaðinu sl. fimmtudag er fróðleg frétt um frumvarp ríkisstjórnarinnar um háeffun Ríkisútvarpsins undir fyrirsögninni Málið í sama hnút og áður. Rætt er við formann menntamálanefndar Alþingis Sigurð Kára Kristjánsson, hinn geðþekka og galvaska frjálshyggjumann, sem áður flutti frumvarp um að ganga enn lengra og hreint til verks og selja RÚV þegar í stað. Sigurður Kári er hinn ánægðasti með gang mála: „Ég er bara hress. Málið er þó í sama hnút og áður fyrr og menn eru ósammála um rekstrarformið.“ Hér talar formaður menntamálanefndar Alþingis Íslendinga. Hann er hinn hressasti þótt málið sé í bullandi ágreiningi. Einhvern tíma þótti skipta máli að...

6. Janúar 2007

FRÁBÆR STUND Í BOÐI UNGRA VINSTRI GRÆNNA


...Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður UVG,  kynnti síðan til sögunnar tvo flokksfélaga, annan sem fékk notið þeirrar náttúrudýrðar sem nú er komin undir lón og hinn sem mun aldrei fá hennar notið. Þetta voru þau Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Elías Jón Guðjónsson.  Auður Lilja sagði jafnframt að þrátt fyrir sorglegt tilefni vildu Ung vinstri-græn jafnframt nýta það til að veita "ákveðnum hóp verðlaun fyrir ósérhlífna baráttu fyrir náttúru Íslands." Þetta reyndist vera þingflokkur VG og tók ég fyrir hans hönd við stórri ljósmynd eftir Christopher Lund. Það er Rauðaflúð sem sjá má á þessari tilkomumiklu mynd...

3. Janúar 2007

ATHYGLISVERÐ UMRÆÐA UM ÞJÓÐFÉLAG, STJÓRNMÁL OG FJÖLMIÐLUN

Nýlega hafa birst hér á síðunni athyglisverðar greinar um fjölmiðla og umfjöllun þeirra um álitamál samtímans. Jón Bjarnason veltir fyrir sér umfjöllun Ríkisútvarpsins um hlutafélagavæðingu opinberrar starfsemi, háeffun, og vísar í starfsemi sem nú er að ganga í gegnum þetta ferli: Flugumferðarstjórnina í landinu og rekstur flugvalla landsins og markaðsvæðingu matvælarannsókna og stofnun hlutafélagsins Matís.
Ólafur B. Andrésson skrifar síðan mjög athyglisverða grein um áhrifamátt fjölmiðla, Fjórða valdsins, í íslensku samfélagi. Ólafur spyr...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta