Annað
25. Desember 2007
TEKIÐ OFAN FYRIR VALDIMAR LEIFSSYNI

...Þegar talað er um íslenska dagskrárgerð þá er það nákvæmlega eðalefni á borð við þessa mynd Valdimars Leifssonar sem RÚV ohf á að vera að framleiða. Ekki bara öðru hverju heldur í hverri viku, alla mánuði ársins! Þetta ber RÚV-inu skylda til að gera svo lengi sem okkur er gert að greiða afnotagjöldin. En ohf-ið sýndi þáttinn. Endurteknar þakkir...En eitt að lokum. Þetta er ekki síðasta myndin sem gerð er um Jónas Hallgrímsson. Þetta var ekki myndin sem setti hann inn í hið yfirvegaða sögulega samhengi. Þetta var ekki myndin sem valdi kvæðin og verkin sem best sýna snilld hans. Öllu ægði saman. Veikleikum Jónasar jafnt sem snilligáfu. Myndin hjálpaði okkur hins vegar að uppgötva nýjar víddir. Flestar geðfelldar. Ekki allar...
10. Desember 2007
SÖLUMIÐSTÖÐ SJÚKLINGA

Hér hafa menn staðnæmst sérstaklega við smyglgóss í frumvarpi heilbrigðisráðherra um almannatryggingar, en þetta frumvarp er einmitt hluti af hinum umfangsmiklu kerfisbreytingum. Hvers vegna smyglgóss? Jú vegna þess að í lítilli lagagrein – nánar tiltekið númer 18 í þessu frumvarpi – er heilbrigðisráðherra gefin heimild til að setja á laggirnar sérstaka verslunarmiðstöð fyrir heilbrigðisþjónustu...
7. Desember 2007
RÆÐUM SAMAN MÁLEFNALEGA
Birtist í DV 06.12.07.
…Ég hef skoðað þessi skrif og neita því ekki að mér varð mjög hverft við. Hótað er hrottafengnum nauðgunum og öðrum líkamsmeiðingum og höfð í frammi meiðandi og særandi ummæli um fólk. Þessar hótanir eru settar fram í nafni einstaklinga en einnig er um að ræða nafnlaus skrif. Í netheimum geta menn farið huldu höfði en þegar skrif birtast á nafnkenndum heimasíðum hljóta eigendurnir að vera jafnframt ábyrgðarmenn. Enginn á að komast upp með að þagga niður lýðræðislega umræðu með ofbeldishótunum...
…Ég hef skoðað þessi skrif og neita því ekki að mér varð mjög hverft við. Hótað er hrottafengnum nauðgunum og öðrum líkamsmeiðingum og höfð í frammi meiðandi og særandi ummæli um fólk. Þessar hótanir eru settar fram í nafni einstaklinga en einnig er um að ræða nafnlaus skrif. Í netheimum geta menn farið huldu höfði en þegar skrif birtast á nafnkenndum heimasíðum hljóta eigendurnir að vera jafnframt ábyrgðarmenn. Enginn á að komast upp með að þagga niður lýðræðislega umræðu með ofbeldishótunum...7. Desember 2007
ÓÞOLANDI AÐ VERA HÓTAÐ
Birtist í 24 Stundum 06.12.07
…Það eitt að kvenfrelsisbaráttan kalli á slík viðbrögð segir sína sögu um fordóma sem eru til staðar í þjóðfélaginu gegn því sem margir töldu óumdeild mannréttindi. Við þá, sem hafa í hótunum við þau okkar sem hafa hvað ötulast haldið gunnfánum baráttunnar á loft, vil ég segja þetta: Vinstrihreyfingin grænt framboð lítur á ögranir og hótanir í garð einstaklinga, sem bera stefnumál okkar fram á lýðræðislegum vettvangi, sem ögrun í garð okkar allra…
…Það eitt að kvenfrelsisbaráttan kalli á slík viðbrögð segir sína sögu um fordóma sem eru til staðar í þjóðfélaginu gegn því sem margir töldu óumdeild mannréttindi. Við þá, sem hafa í hótunum við þau okkar sem hafa hvað ötulast haldið gunnfánum baráttunnar á loft, vil ég segja þetta: Vinstrihreyfingin grænt framboð lítur á ögranir og hótanir í garð einstaklinga, sem bera stefnumál okkar fram á lýðræðislegum vettvangi, sem ögrun í garð okkar allra…7. Desember 2007
TIL VARNAR LÝÐRÆÐINU
Birtist í Morgunblaðinu 06.12.07.
Til eru einræðisríki án einræðisherra. Það eru ríki þar sem rétttrúnaðurinn ríkir. Þegar honum er ógnað er brugðist við með offorsi og hótunum, stundum ofbeldi. Á Íslandi ógna þau sem tala fyrir kvenfrelsi nú ríkjandi einræðishugsun. Þá fullyrðingu dæmi ég af viðbrögðum við nánast öllu því sem slíkt baráttufólk hefur fram að færa. Þetta höfum við fengið að reyna að undanförnu. Beitt er háðsglósum og fyrirlitningartali, gamalkunnum vopnum þeirra sem ekki treysta sér til rökræðu. Það sem færri vita er að jafnvel er gengið enn lengra…
Til eru einræðisríki án einræðisherra. Það eru ríki þar sem rétttrúnaðurinn ríkir. Þegar honum er ógnað er brugðist við með offorsi og hótunum, stundum ofbeldi. Á Íslandi ógna þau sem tala fyrir kvenfrelsi nú ríkjandi einræðishugsun. Þá fullyrðingu dæmi ég af viðbrögðum við nánast öllu því sem slíkt baráttufólk hefur fram að færa. Þetta höfum við fengið að reyna að undanförnu. Beitt er háðsglósum og fyrirlitningartali, gamalkunnum vopnum þeirra sem ekki treysta sér til rökræðu. Það sem færri vita er að jafnvel er gengið enn lengra…7. Desember 2007
SJÁLFUM MÉR TIL VARNAR
Birtist í Fréttablaðinu 06.12.07.
…Hver eru þau kvenfrelsismál sem fara helst fyrir brjóstið á þessu umburðarlitla og ofbeldisfulla fólki? Ég læt mér nægja að vísa í baráttumál þess stjórnmálaflokks sem ég starfa innan, Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Í þeim flokki höfum við barist fyrir því að komið verði í veg fyrir kynbundið ofbeldi, að mansal verði stöðvað, kynbundnum launamun útrýmt, að jafnræði ríki með kynjunum á vinnumarkaði, innan stjórnsýslunnar og í fyrirtækjum. Við viljum með öðrum orðum tryggja mannréttindi öllum til handa á öllum sviðum þjóðlífsins, óháð kyni…
…Hver eru þau kvenfrelsismál sem fara helst fyrir brjóstið á þessu umburðarlitla og ofbeldisfulla fólki? Ég læt mér nægja að vísa í baráttumál þess stjórnmálaflokks sem ég starfa innan, Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Í þeim flokki höfum við barist fyrir því að komið verði í veg fyrir kynbundið ofbeldi, að mansal verði stöðvað, kynbundnum launamun útrýmt, að jafnræði ríki með kynjunum á vinnumarkaði, innan stjórnsýslunnar og í fyrirtækjum. Við viljum með öðrum orðum tryggja mannréttindi öllum til handa á öllum sviðum þjóðlífsins, óháð kyni…2. Desember 2007
ÞRÓUNARFÉLAG KEFLAVÍKURFLUGVALLAR – ÖLL SPIL Á BORÐIÐ!

... Atli Gíslason hefur leitt að því líkur að farið hafi verið á svig við lögin við ráðstöfun almannaeigna, þ.e. í tengslum við sölu á húsnæði á Keflavíkurflugvelli. Þetta hefur komið fram í hans máli í tvígang á Alþingi á undanförnum dögum. Hvers vegna þegja flestir fjölmiðlarnir í þessu máli og flytja nánast einvörðungu friðþægingarfréttir af því? Hvers vegna er DV nánast einn fjölmiðla – Stöð tvö að nokkru leyti einnig - sem virðist standa vaktina í þessu máli?
1. Desember 2007
MERKIISDAGUR Í SÖGU ÞJÓÐARINNAR
...Í mínum huga er fullveldisdagurinn gott tilefni til þess að íhuga hvers virði sjálfstæði þjóðarinnar er. Værum við ef til vill eins vel stödd – eða jafnvel betur – með því að afsala okkur sjálfstæði, finna okkur skjól í stærra ríki? Hefðum við sætt okkur við það til langframa að Danir færu með okkar utanríkismál, kæmi það ef til vill til álita nú að fallast á að stefna okkar í utanríkismálum yrði mótuð í Brussel, höfuðstöðvum Evrópusambandsins? Þetta er ekki sagt af tilefnislausu því margir eru þess mjög fýsandi sem kunnugt er, að Ísland gangi í hið nýja evrópska stórríki í mótun sem Evrópusambandið óneitanlega er. Þar færist nú allt í átt til samræmdar utanríkisstefnu. Í mínum huga erum við Íslendingar, þjóð sem býr yfir sterkri sjálfsvitund, ríkri sögulegri hefð og frjóum menningararfi, betur settir sem...30. Nóvember 2007
SÓKRATES, HJÖRVAR OG ÞORSTEINN SIGLAUGSSON

Þorsteinn Siglaugsson er ekki bara góður penni. Hann er skemmtilega glöggskyggn og þess vegna rökvís.
28. Nóvember 2007
VILJA VERSLA MEÐ MÁLFRELSIÐ!

Fram er komið á Alþingi frumvarp um breytingar á þingskaparlögum. Frumvarpið flytur forseti þingsins, Sturla Böðvarsson, ásamt þingflokksformönnum annarra flokka á Alþingi – að einum undanskildum. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á ekki aðild að frumvarpinu og er ég því ekki einn flutningsmanna þess sem þingflokksformaður VG...Enda þótt í frumvarpinu sé að finna tillögur um að styrkja stöðu þingsins og stöðu stjórnarandstöðu á ýmsa lund vildi stjórnarmeirihlutinn aldrei ljá máls á öðru en að þetta tvennt yrði spyrt saman. Hugsunin var greinilega á þessa lund: Ef þið viljið bætta aðstöðu þá verðið þið að taka því að ræðutími ykkar verði styttur! Með öðrum orðum, kaup og sala, verslun og sviðskipti. Verslun með málfrelsið!...
24. Nóvember 2007
AÐ HAFA ÞETTA "EITTHVAÐ"
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hefur þetta "eitthvað". Þetta sem er "eitthvað" umfram það sem aðrir hafa, þetta sem er öðru vísi, snjallara í framsetningu, með meira innsæi í tilveruna en aðrir hafa. Guðfríður Lilja er sem kunnugt er skákdrottning Íslands, formaður Skáksambandsins, bókmenntakona og heimspekingur, varaþingmaður VG... Ég var að lesa pistil hennar í laugardags-Mogga, Hver kyssir hvern? Dregin er upp mynd af pólitísku daðri og kossaflangsi samtímans. Hver er með hverjum...hver á hvern? Skrifað í eins konar stakkadó stíl. Pistillinn er hér. Heit kaldhæðni...23. Nóvember 2007
LANDSPÍTALI SVELTUR Á MEÐAN EINKAVÆÐINGIN ER UNDIRBÚIN

...Hvað skyldi byggingin verða kölluð þegar hún er orðin einkaspítali? Kannski Heilsuverndarstöð Reykjavíkur? Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, otar nú að Alþingi lagabreytingum um sérstaka verslunarmiðstöð fyrir heilbrigðisþjónustu. Hún á að vera tilbúin þegar einkaspítalarnir eru klárir. Þá verður viðkvæðið að ekki megi mismuna ríkisrekstri annars vegar og einkarekstri hins vegar. Geir, forsætisráðherra, sagði jú nýlega að miklar breytingar væru í nánd – í heilbrigðiskerfinu. Nú hefði Sjálfstæðisflokkurinn nefnilega svo leiðitaman förunaut í Stjórnarráðinu. Ég man ekki hvaða orð hann notaði. En þetta var það sem hann meinti. Þannig skyldi ég það alla vega. En getur verið að Samfylkingin...?
19. Nóvember 2007
TÓNSPROTINN

Nýlega hlotnaðist mér sá heiður að opna allsérstæða vefverslun með hljómdiska.Verslunin, sem nefnist Tónsprotinn, er sérstæð fyrir það að hún byggir á samstarfi hljómlistarmanna og ýmissa þjóðþrifasamtaka. Þar nefni ég klúbbinn Geysi sem ég þekki af góðu; hef setið þar í stjórn og kynnst starfi á hans vegum í þágu fólks sem stríðir við geðveilu. Mörg önnur samtök koma að þessu samstarfi. Þar má nefna MS-Félagið, Kraft, Umsjónarfélag einhverfra, ABC-barnahjálp, FAAS Geðhjálp, Umhyggju og Ljósið....
18. Nóvember 2007
VARNAÐARORÐ FORSTJÓRA LANDSPÍTALA-HÁSKÓLASJÚKRAHÚSS
...Hvað er Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss að segja með grein sinni? Í fyrsta lagi er hann að hvetja til umræðu um framtíð íslensku heilbrigðisþjónustunnar. Ekki sé allt sem sýnist í þessari umræðu hvað sem líður því sem sagt sé opinberlega. Í öðru lagi segir hann ... Þannig les ég í Morgunblaðsgrein forstjóra Landspítala – háskólasjúkrahúss. Fróðlegt væri að vita hvað forstjóranum finnist um hugmyndir heilbrigðisráðherra um að búa til nýja stofnun samkvæmt gömlu - að því er ég hélt úrsérgengnu sænsku kerfi – sem á að annast viðskipti með alla þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Sjálfur óttast ég að þetta sé verra en sjónarspil, svo notuð séu orð Magnúsar Péturssonar. Ég óttast að með þessu sé verið að stíga afdráttarlaust skref í átt til einkavæðingar íslenska heilbrigðiskerfisins... 14. Nóvember 2007
ER MENNTAMÁLARÁHERRA VIRKILEGA ALVARA?
...Ég skal játa að mig setti hljóðan við að heyra þessi ummæli. Það er rétt að Hollvinasamtök Ríkisútvarpsins börðust gegn því að stofnunin yrði gerð að hlutafélagi. Það var gert vegna þess að samtökin óttuðust að það myndi veikja Ríkisútvarpið yrði það gert að hlutafélagi. Með öðrum orðum andstaðan við hlutafélagavæðingu var vegna umhyggju félagsmanna fyrir Ríkisútvarpinu og framtíð þess. Nú er þessum hópi legið á hálsi fyrir að vera sérstakt óvildarfólk RÚV vegna þess að það var á öndverðum meiði við ráðherrann um rekstrarform stofnunarinnar! Er ekki eitthvað háskalegt við þessa hugsun? Mér finnst ástæða að spyrja þess. Við sem viljum taka ráðherrann alvarlega hljótum að... Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráherra, gefur því undir fótinn að RÚV kunni að verða tekið út af auglýsingamarkaði. Hvað gerðist þá? Yrði stofnuninni ekki þrýst fastar inn í faðmlagið við...13. Nóvember 2007
EKKI ATVINNUREKSTUR HELDUR GLÆPASTARFSEMI
...Ekkert af þessu á þó við þegar aðfarirnar gegn sumarbústaðafólki í Skorradal og reyndar víðar á landinu eru annars vegar. Þar hafa óprúttnir viðskiptamenn greinilega fest kaup á byggðu sumarbústaðalandi beinlínis með það fyrir augum að féfletta fólkið í byggðunum...Árum saman hefur verið beðið eftir lagasetningu til að verja fólk gegn ofbeldi af þessu tagi. Ráðherrar hafa lofað – en aðallega upp í ermina á sér. Hver er skýringin? Hvað dvelur orminn langa? Hvers vegna er lagafrumvarpi ekki hraðað í gegnum Alþingi? Slíkt frumvarp yrði án efa stutt af öllu því strangheiðarlega fólki til sveita sem hefur atvinnu af því að leigja land... Það mál sem hér er hreyft við snýst hins vegar ekki um atvinnurekstur heldur glæpastarfsemi. Hvers vegna er hún ekki stöðvuð... 12. Nóvember 2007
ÚTRÁS ÓLAFSFELLS?

...Við þetta vakna ýmsar spurningar. Í fyrsta lagi hvort þetta standist lög um tekjustofna Ríkisútvarpsins ohf. Í öðru lagi vakna spurningar um áhrif peningamanna á dagskrárgerð RÚV ohf þótt forsvarsmenn fyrirtækisins reyndu að sverja allt slíkt af sér í fréttatímum á föstudag. Þá hlýtur maður að velta fyrir sér framtíðarþróun á fjölmiðlamarkaði. Þegar illu heilli var ákveðið að gera RÚV að hlutafélagi var því spáð á þessari síðu að hugsanlega rynni sá dagur upp að RÚV og Morgunblaðið ættu eftir að renna saman í eitt, alla vega stórefla samstarf sín í milli. Í nafni hverra skyldi fréttatilkynningin um fréttamannafundinn sl. föstudag hafa verið send? Hún var send í nafni RÚV og Ólafsfells. Hver skyldi vera einn stærsti eignaraðili að Morgunblaðinu? Svar: Ólafsfell. Síðan er það níðið um ríkið...
10. Nóvember 2007
FLOTT SVANDÍS!

...Hún hafi talað máli okkar félagshyggjufólks eins vel og kostur er hvar sem hún hafi komið fram, hvort sem er í umræðum í Ráðhúsi eða í fjölmiðlum, útvarpi, sjónvarpi eða blöðum... er að lokinni yfirferð minni þessu mjög sammála..sneri orkudallinum inn í skynsemisfarveginn, bendi ég á Silfur Egils um síðustu helgi. Aldrei varð oddvita okkar VG-ara í Reykjavík, Svandísi Svavarsdóttur, svaravant í þeim þætti. Hún talaði máli almennings, hvort sem var hér á landi eða úti í heimi...
1. Nóvember 2007
SAMFÉLAG EÐA SUNDRUÐ Á MARKAÐI?
Birtist í 24 Stundum 31.10.07.
Ýmsir hagspekingar hafa bent á að svo kunni að fara að evran komi inn í íslenskt hagkerfi án pólitískrar ákvörðunar: „Evran taki sig upp sjálf,“ einsog það var orðað á forsíðu Fréttablaðsins í byrjun vikunnar. Þar var vitnað í yfirlýsingar forsvarsmanna á vinnumarkaði að svo gæti farið að samið yrði um evrulaun í kjarasamningunum framundan. Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, sagði af þessu tilefni að æskilegra væri að um gjaldmiðilinn væru teknar formlegar og yfirvegaðar ákvarðanir því óbeisluð þróun hefði ýmsar óheppilegar afleiðingar: „Evran kæmi þá fyrir tilverknað fjölda aðila þar sem hver leitast við að taka ákvarðanir út frá eigin hagsmunum. Og þarna eru komnir forystumenn launafólks og atvinnurekenda sem telja að það geti þjónað hagsmunum beggja að semja um kaup og kjör í erlendri mynt.“ Allt er þetta til ...
Ýmsir hagspekingar hafa bent á að svo kunni að fara að evran komi inn í íslenskt hagkerfi án pólitískrar ákvörðunar: „Evran taki sig upp sjálf,“ einsog það var orðað á forsíðu Fréttablaðsins í byrjun vikunnar. Þar var vitnað í yfirlýsingar forsvarsmanna á vinnumarkaði að svo gæti farið að samið yrði um evrulaun í kjarasamningunum framundan. Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, sagði af þessu tilefni að æskilegra væri að um gjaldmiðilinn væru teknar formlegar og yfirvegaðar ákvarðanir því óbeisluð þróun hefði ýmsar óheppilegar afleiðingar: „Evran kæmi þá fyrir tilverknað fjölda aðila þar sem hver leitast við að taka ákvarðanir út frá eigin hagsmunum. Og þarna eru komnir forystumenn launafólks og atvinnurekenda sem telja að það geti þjónað hagsmunum beggja að semja um kaup og kjör í erlendri mynt.“ Allt er þetta til ...
29. Október 2007
FORSETAEMBÆTTIÐ – TIL ÚTRÁSAR EÐA HEIMABRÚKS?

...Þurfa Íslendingar ekki að huga að samfélagslegri ábyrgð sinni víðar en hér á landi? Hlýtur það ekki að verða forseta Íslands til umhugsunar þegar þotuliðið minnir okkur á einu sinni enn að því komi Ísland ekki við að öðru leyti en því að notast megi við það í fjárfestingarbraski! Ég sá það haft eftir forseta Íslands að hann taki ekki þátt í opinberri umræðu um ferðir sínar og ferðamáta. Ég tel aftir á móti að hann eigi að gera það. Ef sá Ólafur Ragnar Grímsson, sem ég þekkti ágætlega, er orðinn feiminn við opinbera umræðu, þá er mér illa brugðið. Að sjálfsögðu á að ræða þessi mál til hlítar, þ.e. til hvers við ætlumst af forsetaembættinu og þá ekki síst samkrull þess við auðmenn, innlenda sem erlenda...
26. Október 2007
BSRB ÁLYKTAR UM ORKUVEITU REYKJAVÍKUR
Stjórn BSRB hefur skorað á borgaryfirvöld í Reykjavík að ógilda þegar í stað samninga um sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy enda ekki rétt að þeim staðið. Auk þess krefst stjórn samtakanna þess að hætt verði við áform um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og kallar eftir breytingum á lögum sem komi í veg fyrir að einkaaðilar eignist náttúruauðlindir Íslands. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag. Þá bendir stjórn BSRB á að Sameinuðu þjóðirnar hvetja nú til samstarfs opinberra veitufyrirtækja, aðallega á sviði vatnsveitna, til að ná megi settum þúsaldarmarkmiðum SÞ sem flest ríki heims og Ísland þar á meðal hafa skuldbundið sig til að vinna að. Reynslan hefur sýnt að útrás einkafyrirtækja inn á svið samfélagsþjónustunnar hefur almennt haft neikvæðar afleiðingar í för með sér . ...21. Október 2007
DÆMUM MENN AF VERKUM ÞEIRRA

...Í dag heyrðist nokkuð sérstæð frétt í útvarpi. Hlustendur fengu að heyra að Framsóknarmenn í Skagafirði hefðu ákveðið að beina því til flokks síns og Alþingis að ef þingmenn tækju upp á því að stunda nám jafnframt þingstörfum væri eðlilegt að kalla inn varamenn. Í fréttinni kom fram að þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Magnús Stefánsson hefðu ákveðið að leggja stund á svokallað MBA nám í vetur. Birkir Jón varð til svara fyrir þá félaga og sagði að sú viðhorfsbreyting hefði orðið í samfélaginu og í afstöðu til menntunar að námi ætti í reynd aldrei að ljúka. Símenntun og endurmenntun væri í samræmi við þá hugsun....
17. Október 2007
ENIKAVÆÐINGIN FREISTAR

...Ég spyr, er það krafa og þörf nútúmasamfélags að fjárfestar geri sér menntun ungviðisins og bágborið heilsufar fólks að féþúfu? Endurspeglar þetta einhver sérstök kvenleg gildi? Hvers vegna reynir þetta fólk ekki sjálft að finna upp eitthvað nýtt í stað þess að troða sér inn í starfsemi sem samfélagið hefur komið sér upp og hefur gengið ágætlega að þróa svo fremi sem fjármunir eru fyrir hendi? "Frumkvöðlarnir" segja að áfram eigi skattborgarinn að borga – þeir ætli hins vegar að tryggja fjárfestum hlutdeild í framlagi hins opinbera í "góðri langtímaarðsemi" einsog það heitir. Í mínum huga er einfaldlega verið að búa til óþarfa milliliði...
16. Október 2007
ER LÝÐHEILSUSTOFNUN HÆTT AÐ SINNA HLUTVERKI SÍNU?

Þórólfur Þórlindsson, nýr forstjóri Lýðheilsustöðvar, og
15. Október 2007
LÍTIÐ GEFIÐ FYRIR LÝÐHEILSU
Hafin er á Alþingi árviss mannréttindabarátta um að koma áfengissölu í matvöruverslanir. Að þessu sinni er það Margt umhugsunarvert kom fram við umræðuna í dag. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvaðst þannig vera að berjast fyrir hagsmunum neytenda með flutningi þessa frumvarps og fyrrgreindur fyrsti flutningsmaður, Sigurður Kári, lagði áherslu á í því samhengi, að það hlyti að vera mikið hagræði í því fólgið að geta keypt eina hvítvín hjá fisksalanum um leið og keypt væri í soðið...
14. Október 2007
GUÐFINNA OG SKÖPUNARSAGAN

...Vitræn Hönnun, Intelligent Design lætur hins vegar betur í eyrum en bókstafstrú og hefur auk þess vísindalegt yfirbragð. Á undanförnum árum hafa strangtrúarsöfnuðir í Bandaríkjunum og samtök þeim tengd farið mikinn og viljað hnekkja lögmálum í líffræði og jarðfræði, sem ganga í berhögg við sköpunarsögu Biblíunnar.
Þeim hefur orðið talsvert ágengt undir verndarvæng Bush, forseta sem nánast hefur verið strengjabrúða þessara afla...Í Evrópu er farið að gæta þessara tilhneigingar og hafa sköpunarsögumenn að undanförnu stöðugt reynt að færa sig upp á skaftið. Um miðja síðustu viku birtist þessi litla frétt á RÚV: "Ályktun um að varað verði við því að sköpunarkenningin verði kennd sem vísindagrein í hinu opinbera menntakerfi var samþykkt í Evrópuráðinu á fimmtudaginn. Guðfinna Bjarnadóttir, fulltrúi Íslands, greiddi atkvæði gegn ályktuninni. Guðfinna segir að ...
11. Október 2007
VISTVÆNT AÐ VIRKJA GULLFOSS?

...Ekki veit ég hverjir þessir "allir" eru sem Ólafur Jóhann Ólafsson segir að hafi viljað fá erlendan fjárfesti að orkuauðlindum Íslands. Látum það liggja á milli hluta. Staðnæmumst við fjárfestingu í "vistvænni orku" . Ólafur Jóhann segir Íslendinga hafa mikla sérstöðu í þessum geira og standa í fremstu röð í heiminum þegar vistvæn orka er annars vegar. Þetta þykir mér vera klisjukent tal. Að mínu mati er fráleitt að aðgreina orkuframleiðsluna öðrum þáttum. Spyrja þarf um ferlið allt. Til hvers er virkjað og hverju er spillt? Ef virkjað er til þess að framleiða einnota kókdósir úr áli, eða skriðdreka til árása á íraska alþýðu til að hafa af henni olíuauðlindirnar - er það þá vistvæn virkjun ef virkjunin sjálf er ekki...
2. Október 2007
GÓÐ SKILABOÐ FRÁ BESSASTÖÐUM
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti góða ræðu við setningu Alþingis í gær. Orð hans voru í tíma töluð. Hann sagði að við yrðum að hlúa að menningararfi þjóðarinnar ekki aðeins sem þakkargjörð við liðinn tíma, "heldur til þess að við glötum ekki sálu okkar, slítum ekki upp ræturnar í umrótinu sem fylgja mun hinni nýju öld. Sjálfsmynd og staðfesta íslenskrar þjóðar hvílir einkum á þremur stoðum:
- Arfleifðinni sem íbúar dreifðra byggða hafa skapað.
- Samkenndinni sem hliðstæð lífskjör festu í sessi.
- Tungumáli sem gaf menningunni ávallt nýjan sköpunarkraft.
Þessi þrenning arfleifðar, samkenndar og tungu á nú í vök að verjast og því áríðandi að hugað sé vel að stefnumótun og ákvörðunum."
Ég finn það að Íslendingar skynja að nú þarf í alvöru að rísa upp til varnar íslenskum menningararfi. Peningamennirnir sem sýsla með sálarlaust silfrið og þjónar þeirra gefa lítið fyrir íslenska tungu og íslenska menningu og þótti mér gott að hlýða á orð forseta lýðveldisins sem ganga...
20. September 2007
KVÓTAKERFIÐ ER RÁNSKERFI
Birtist í DV 19.09.07.
...„Teldu upp þjófana, nefndu þá á nafn,“ sagði einn viðmælandi minn eftir að fyrrnefnd blaðagrein hafði birst. Við þekkjum flest til aðila sem malað hafa gull á kvótabraski í smáum eða stórum stíl. Hins vegar má spyrja hvort allir séu ræningjar sem hagnast á ranglátu kerfi. Þetta er siðferðileg spurning sem rifjar upp gamla staðhæfingu ættaða frá Vilmundi heitnum Gylfasyni: Löglegt en siðlaust. Ekki ætla ég að dæma alla menn óheiðarlega sem hafa hag af ranglátum lögum og reglum. Því fer víðs fjarri. Hins vegar má reisa þá siðferðilegu kröfu á hendur þeim, að þeir taki höndum saman með félögum sínum í íslensku samfélagi að breyta fyrirkomulagi í þá veru að réttlæti sé fullnægt.
Ef menn vilja halda sig við þá kröfu að ég telji upp ræningjana þá væri sennilega næst lagi að segja að...
...„Teldu upp þjófana, nefndu þá á nafn,“ sagði einn viðmælandi minn eftir að fyrrnefnd blaðagrein hafði birst. Við þekkjum flest til aðila sem malað hafa gull á kvótabraski í smáum eða stórum stíl. Hins vegar má spyrja hvort allir séu ræningjar sem hagnast á ranglátu kerfi. Þetta er siðferðileg spurning sem rifjar upp gamla staðhæfingu ættaða frá Vilmundi heitnum Gylfasyni: Löglegt en siðlaust. Ekki ætla ég að dæma alla menn óheiðarlega sem hafa hag af ranglátum lögum og reglum. Því fer víðs fjarri. Hins vegar má reisa þá siðferðilegu kröfu á hendur þeim, að þeir taki höndum saman með félögum sínum í íslensku samfélagi að breyta fyrirkomulagi í þá veru að réttlæti sé fullnægt.
Ef menn vilja halda sig við þá kröfu að ég telji upp ræningjana þá væri sennilega næst lagi að segja að...
18. September 2007
ÞARF AÐ GERA UPPREISN?
Birtist í DV 17.09.07.
...Ég trúi því ekki að Íslendingar séu orðnir svo blóðlausir og værukærir að þeir láti þetta yfir sig ganga. Ég spyr um ábyrgð kjörinna fulltrúa á þingi og í bæjarstjórnum og ég spyr um embættismenn sem settir hafa verið til að stýra orkufyrirtækjum okkar – er allur hópurinn kominn á mála hjá peningavaldinu? Eða hvernig stendur á því að Alcoa var hleypt inn í sameiginlegt djúpborunarverkefni Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja? Var það til þess að Alcoa kæmi fætinum inn fyrir dyrnar? Hvers vegna Alcoa? Hvers vegna ekki Alcan, Ríó Tintó eða Bechtel? Hafa menn engar áhyggjur af hagsmunaárekstrum á milli íslenskra orkusala og útlendra orkukaupenda? Eða líður mönnum ef til vill betur ef þeir koma ekki auga á...
...Ég trúi því ekki að Íslendingar séu orðnir svo blóðlausir og værukærir að þeir láti þetta yfir sig ganga. Ég spyr um ábyrgð kjörinna fulltrúa á þingi og í bæjarstjórnum og ég spyr um embættismenn sem settir hafa verið til að stýra orkufyrirtækjum okkar – er allur hópurinn kominn á mála hjá peningavaldinu? Eða hvernig stendur á því að Alcoa var hleypt inn í sameiginlegt djúpborunarverkefni Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja? Var það til þess að Alcoa kæmi fætinum inn fyrir dyrnar? Hvers vegna Alcoa? Hvers vegna ekki Alcan, Ríó Tintó eða Bechtel? Hafa menn engar áhyggjur af hagsmunaárekstrum á milli íslenskra orkusala og útlendra orkukaupenda? Eða líður mönnum ef til vill betur ef þeir koma ekki auga á...
17. September 2007
HIÐ HUGLÆGA OG MENNINGARLEGA Í TILVERUNNI
Drífa Snædal skrifar athyglisverða og mjög umhugsunarverða grein hér á síðuna þar sem hún fjallar um þá gegndarlausu auðhyggju sem læsir sig nú um þjóðarlíkamann. Drífa fjallar um markaðsvæðingu samfélagsins, sem runnin er undan rifjum stjórnvalda á undanförnum árum og víkur einnig að umræðunni um Evrópusambandið og Evruna: "Einungis efnahagsleg rök eru notuð til að reka áróður fyrir evrunni sem gjaldmiðli fyrir Ísland en það gleymist iðulega í umræðunni að það kostar að halda úti fullvalda þjóð í sjálfstæðu ríki. Á mælikvarða peninganna er engin skynsemi í því að halda úti íslenskunni. Það kostar ógrynni fjár að gefa út orðabækur, túlkaþjónusta er dýr, útgáfa skáldsagna væri miklu hagkvæmari á öðrum tungumálum, fjölmiðlarnir okkar gætu farið í útrás á ensku og svo mætti lengi telja. Það eru nefnilega önnur gild rök fyrir tilveru okkar en efnahagsleg. Þau rök verða líka að heyrast í umræðunni..." Þessu er ég hjartanlega sammála eða skyldi einhver vera búinn að gleyma því að sú var tíð að rætt var um að flytja fátæka íslenska þjóð á Jótlandsheiðar. Það væri...14. September 2007
Á MEÐAN LANDINU ER STOLIÐ…
...Er ekki kominn tími til að þjóðin láti í sér heyra svo um munar áður en landinu öllu er stolið frá henni? Að venju lætur eftirlitsstofnun markaðshyggjunnar ekki sitt eftir liggja. Í skýrslu, sem birt var í gær og er unnin af norrænum "systurstofnunum" Samkeppniseftirlitsins, segir, að nú þurfi að greina betur á milli samkeppnis- og einkaleyfisþátta á raforkumarkaði. Á rúv.is er staðhæft eftir skýrsluhöfundum: "Íslenski raforkumarkaðurinn hefur mikla sérstöðu vegna skorts á samkeppni." En bíðum við, á þetta ekki líka við um Svíþjóð og Noreg og reyndar Evrópu alla? Þar stefnir alls staðar í fækkun fyrirtækja, vikulega koma fram ásakanir um verðsamráð og einkokun með hækkandi raforkuverði. Samt er haldið áfram inn í öngstrætið - með samanlagðri staðfestu þeirra ...13. September 2007
GUÐLAUGUR, GOSIÐ OG LÝÐHEILSUSTÖÐ

Mikið er það annars ánægjulegt hve áhugasamur Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, er um lýðheilsumál. Í fréttum í kvöld kom fram að sérstaklega væri honum mikið mál að styrkja Lýðheilsustöð. Ný löggjöf á döfinni þar að lútandi, starfshópar stofnaðir og bókstaflega allt á fullu. Þetta minnir mig svolítið á lúðrablásturinn á fréttamannafundunum þegar Lýðheilsutöðin var sett á laggirnar; stofnun sem á meðal annars átti – og á - að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um lýðheilsumál. Til dæmis um skattlagningu á hollustuvörum og óhollustunni einnig. Síðasliðið vor var virðisaukaskattur og vörugjöld færð niður á matvöru. Langmest á gosdrykkjum. Lýðheilsustöð mótmælti. Guðlaugur Þór og félagar lögðu við hlustir. Ekki eftir boðskap Lýðheilsustöðvar. Þeir hlustuðu á...
8. September 2007
TVEIR LEIÐARAR OG EINN DV-PISTILL

...Og hver er þá hinn "nútímalegi" fréttamaður? Það er sá maður sem kafar í málin, les sér til og færir okkur fróðleik með umfjöllun sinni. Hinn nútímalegi fréttamaður þorir að vekja máls á atriðum sem ekki endilega falla í kramið hjá valdhöfum hverju sinni. Mér þykja skrif Jóhanns Haukssonar í DV að undanförnu vera í þessum anda. Í grein sem birtist eftir hann sl. fimmtudag, er að finna margt athyglisvert, sem m.a. lýtur að útrás í orkugeiranum en þar vísar JH í fjárfestingar sænska orkurisans Vattenfall á meginlandi Evrópu. Vattenfall gengur ágætlega. En ekki sænskum raforkukaupendum, almenningi, mér og þér. Þarf Mogginn og Fréttablaðið að taka einsog einn leiðara um þetta...
6. September 2007
BJÖRN TH. BJÖRNSSON ALLUR
Enginn deilir um að Björn Th. Björnsson, rithöfundur og listfræðingur, var einn af andans jöfrum Íslands á öldinni sem leið. Hann lést í lok ágústmánaðar og hefur nú verið til grafar borinn. Það var við hæfi að prófasturinn á Reynivöllum í Kjós, dr. Gunnar Kristjánsson, skyldi fenginn til að jarðsyngja Björn Th. Brást honum ekki bogalistin fremur en endranær. Minningarorð hans voru áhrifarík, listræn og menningarleg í anda þess manns sem kvaddur var. Þorleifur Hauksson las úr Hraunfólkinu eftir Björn Th. og verður sá lestur án efa mörgum tilefni til að grípa þá bók út úr skápnum til að lesa. Eftirfarandi eru minningarorð Gunnars Kristjánssonar...4. September 2007
"NÁTTÚRUFEGURÐIN ER SAMEIGN ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR"

Ummæli Huga Ármannssonar frá Stóra-Núpi í Kastljósi Sjónvarpsins á þá lund að sú náttúrufegurð, sem nú er ógnað af virkjunaráformum Landsvirkjunar í neðri Þjórsá, sé sameign íslensku þjóðarinnar, voru sem töluð út úr mínu hjarta. Um síðustu helgi fór ég ásamt félögum mínum í VG um það svæði sem Landsvirkjun hefur áform um að virkja á við Þjórsá....Getur verið að ofbeldissvaltarinn sé kominn af stað? Að virkja eigi hvað sem tautar og raular, líkt og við Kárahnjúka...Almenningur þarf að fara að hugsa sinn gang gagnvart þessu ofbeldi. Nú er búið að upplýsa að í leynd og af ótrúlegri óskammfeilni og bíræfni voru vatnsréttindi í almannaeign framseld til ráðstöfunar hjá Landsvirkjun nokkrum dögum fyrir kosningar. Hver er siðferðileg staða slíkrar gjörðar? Hvernig á að bregðast við ofbeldi af þessu tagi? Þetta hljóta menn að þurfa að íhuga. Við þessu þarf að finna svör!
4. September 2007
GOTT HJÁ ÖSSURI
Birtist í Fréttablaðinu 03.09.07.
Djúpstæðustu átök undanfarna áratugi eru átökin um eignarhald á auðlindum til lands og sjávar. Afdrifaríkar ákvarðanir hafa verið teknar og má í því samhengi nefna kvótalögin sem allir þekkja og ýmis önnur lög af sama meiði sem eru síður kunn þótt þau eigi eftir að hafa áhrif á skiptingu gæðanna ekki síður en kvótalögin sem hafa gert suma að milljarðamæringum en svipt aðra lífsbjörginni. Lögin um Rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, frá 1998 eru þannig einhver skelfilegustu lög síðari tíma en með þeim var eignarhald á jarðhitanum fært í hendur einkaaðila. Átökin hafa snúist um þetta...
Djúpstæðustu átök undanfarna áratugi eru átökin um eignarhald á auðlindum til lands og sjávar. Afdrifaríkar ákvarðanir hafa verið teknar og má í því samhengi nefna kvótalögin sem allir þekkja og ýmis önnur lög af sama meiði sem eru síður kunn þótt þau eigi eftir að hafa áhrif á skiptingu gæðanna ekki síður en kvótalögin sem hafa gert suma að milljarðamæringum en svipt aðra lífsbjörginni. Lögin um Rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, frá 1998 eru þannig einhver skelfilegustu lög síðari tíma en með þeim var eignarhald á jarðhitanum fært í hendur einkaaðila. Átökin hafa snúist um þetta...
3. September 2007
"SVAKALEGA SÁTTIR" - EN HVAÐ NÆST?

...Það er hollt að huga að samhengi hlutanna. Þegar Orkuveita Reykjavíkur er nú sett upp á einkavæðingarfæribandið þá er það gert til að þjóna peningamönnum á borð við þá Finn og Ólaf. Þeir beinlínis lýsa því yfir að vænlegustu fjárfestingarkostir komandi ára séu á sviði raforku og vatns. Er það kannski þarna sem hina "spennandi" fjárfestingar Finns Ingólfssonar er að finna? En peningamennirnir þurfa pólitíska hjálp einsog fyrri daginn. Eðlilegt er að spurt sé: Hverjum eru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmssson, oddviti Sjálfstæðismanna og Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík, að þjóna með því að krefjast þess að OR verði færð í sölubúning með háeffun?
30. Ágúst 2007
"EKKI Á ÞESSU KJÖRTÍMABILI...."

Vihjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík sagði í fréttum í kvöld að þótt Orkuveita Reykjavíkur yrði gerð að hlutafélagi þá yrði hún ekki seld á þessu kjörtímabili. Takið eftir, ekki á þessu kjörtímabili. Orðrétt sagði hann nákvæmlega þetta: "Slík tillaga verður ekki flutt á þessu kjörtímabili." Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík segist ekki vera hlynntur einkavæðingu orkugeirans "því hann búi yfir íslenskum auðlindum." Samt styður hann tillögu um háeffun Orkuveitunnar sem allir vita að er undanfari sölu. Björn Ingi ber því við að hann vilji stuðla að útrás orkufyrirtækja. Það vil ég líka. Ég spyr hvað standi í vegi þess að sameignarfélagið OR ...
28. Ágúst 2007
MILLJARÐAGRÓÐI – HVAÐA LÆRDÓM MÁ DRAGA?
Birtist í Morgunblaðinu 27.08.07.
Í Fréttaviðtali fyrir nokkrum dögum lýsti Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, á myndrænan og lifandi hátt hve gríðarmikill hagnaður Kaupþings banka hefði verið á síðasta ári í þjóðhagslegu samhengi. Ritstjórinn minnti á hve dýr Kárahnjúkavirkjun hefði verið og sagði hagnaðinn slaga í helminginn af henni, heil sjö Héðinsfjarðargöng, hálft álver á Reyðarfirði og margfalt árlegt framlag til vegamála í landinu! Hagnaður Kaupþings banka nam á síðasta ári tæpum 47 milljörðum króna eftir skatta. Síðan þessar tölur voru birtar hafa ...
Í Fréttaviðtali fyrir nokkrum dögum lýsti Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, á myndrænan og lifandi hátt hve gríðarmikill hagnaður Kaupþings banka hefði verið á síðasta ári í þjóðhagslegu samhengi. Ritstjórinn minnti á hve dýr Kárahnjúkavirkjun hefði verið og sagði hagnaðinn slaga í helminginn af henni, heil sjö Héðinsfjarðargöng, hálft álver á Reyðarfirði og margfalt árlegt framlag til vegamála í landinu! Hagnaður Kaupþings banka nam á síðasta ári tæpum 47 milljörðum króna eftir skatta. Síðan þessar tölur voru birtar hafa ...
26. Ágúst 2007
BAKSTUR ORKUMÁLASTJÓRA
Birtist í Morgunblaðinu 25.08.07.
...Nú er það gott mál ef íslenskir bakarar hafa fengið hagstæðan raforkusamning svo vikið sé aftur að yfirlýsingum orkumálastjóa. En væri ekki ráð að láta fleiri íslensk iðnfyrirtæki fá raforku á góðum kjörum í stað þess að hygla erlendri stóriðju? Þetta geta eigendur íslenska raforkugeirans gert, nefnilega íslenska þjóðin...Ekki láta hlutdræg yfirvöldin baka ofan í okkur einhvern veruleika sem byggist á óskhyggju en ekki staðreyndum...
...Nú er það gott mál ef íslenskir bakarar hafa fengið hagstæðan raforkusamning svo vikið sé aftur að yfirlýsingum orkumálastjóa. En væri ekki ráð að láta fleiri íslensk iðnfyrirtæki fá raforku á góðum kjörum í stað þess að hygla erlendri stóriðju? Þetta geta eigendur íslenska raforkugeirans gert, nefnilega íslenska þjóðin...Ekki láta hlutdræg yfirvöldin baka ofan í okkur einhvern veruleika sem byggist á óskhyggju en ekki staðreyndum...
25. Ágúst 2007
ARI Á HRÍSUM OG MAGNÚS Á GILSBAKKA
Ari Teitsson, fyrrum formaður Bændasamtakanna, ráðunautur og bóndi á Hrísum í Þingeyjarsýslu skrifar afar góða grein í Fréttablaðið sl. föstudag. Heiti greinarinnar er Þankar um sparisjóði. Ari greinir á mjög skýran hátt hvað gerist við markaðsvæðingu samfélagslegrar þjónustu, ekki aðeins hvað sparisjóði varðar heldar einnig aðra starfsemi...Í grein sinni vitnar Ari í skrif Magnúsar Sigurðssonar á Gilsbakka, fyrrverandi stjórnarformanns Sparisjóðs Mýrasýslu sem m.a. veltir fyrir sér félagslegu hlutverki stofnfjáreigenda. Við þann lestur rennur upp fyrir lesandanum hve fráleitt allt tal er um "fé án hirðis." ...25. Ágúst 2007
JÓN ÁSGEIR SIGURÐSSON FALLINN FRÁ
Ekki man ég eftir neinum manni sem á undanförnum tveimur áratugum eða svo hefur verið eins ötull og Jón Ásgeir Sigurðsson að efna til umræðu í þjóðfélaginu um hlutverk fjölmiðla og þá einkum og sér í lagi Ríkisútvarpsins. Greinar voru skrifaðar, efnt til funda og málþinga, skýrslur útgefnar. Alltaf var hinn mikli eldhugi tilbúinn að varpa ljósi reynslu sinnar og vitneskju á þetta mikilvæga málefni. Sjálfur á ég í fórum mínum fjöldann allan af skýrslum og ritgerðum sem ég hafði fengið frá Jóni Ásgeiri og oft áttum við samræður um þessi efni sem ég hafði mikið gagn af. Um árabil gegndi Jón Ásgeir formennsku í Starfsmannasamtökum Ríkisútvarpsins sem voru eins konar regnhlífarsamtök stéttarfélaganna í stofnuninni. Þau létu sig umræðu af því tagi sem hér er vísað til mjög til sín taka í formannstíð Jóns. Ég átti kost á því nokkrum sinnum...24. Ágúst 2007
TÍMI TIL AÐ STALDRA VIÐ
Úrskurðað hefur verið um rétt landeigenda við Jökulsá á Dal til greiðslna í bætur vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þeim er heitt í hamsi, telja sig vera hlunnfarna. Talað er um dónaskap. Lögfræðingar segja að réttindi landeigenda séu metin í gegnum baksýnisspegilinn. Nú séu breyttir tímar. Markaðurinn hafi tekið völdin og menn verði að gera sér grein fyrir því. Þetta eru skiljanleg viðbrögð. Stjórnvöld á Íslandi hafa unnið að því að markaðsvæða, ekki aðeins raforkukerfið heldur hafa þau einnig talað fyrir breytingum á lögum sem stykja einkaeignarrétt á vatni í sessi. Til hvors tveggja horfa landeigendur og lögfræðingar þeirra og vitna óspart til þessa. Þeir horfa vissulega einnig til...22. Ágúst 2007
LOFSVERT AÐ ÞORA...

...Borgarstjóri hefur orðið fyrir aðkasti á netsíðum og í almennum fjölmiðlum vegna yfirlýsinga sinna um brennivínsútsölur og spilabúllur. Ekkert er athugavert við að fólk viðri sjónarmið sín um þessi efni og hafi þess vegna á þeim miklar skoðanir. Það hefur borgarstjóri einnig leyfi til að gera – og gott betur. Honum ber að leita leiða til að finna lausnir á vandamálum sem plaga borgarbúa. Og orð eru til alls fyrst.
Spurningin snýst ekki um það eitt hvort borgarstjóri hafi rétt fyrir sér heldur að hann skuli þora að taka afstöðu í umdeildum málum, einnig þeim sem ekki falla í kramið hjá sterkum hagsmunaaðilum. Fyrir það á hann hrós skilið...
21. Ágúst 2007
Í SIGTINU HJÁ TR
Tryggingastofnun ríkisins hefur verið að sækja mjög í sig veðrið varðandi þjónustu og býður í síauknum mæli upp á rafræn samskipti. Að sjálfsögðu þarf þjónusta stofnunar á borð við TR að vera blanda af tvennu, persónulegri þjónustu sem veitt er augliti til auglitis og síðan fljótvirkum samskiptum um netið. Það skiptir gífurlegu máli að samskipti stofnunarinnar og þeirra sem til hennar þurfa að sækja, séu í góðu lagi. Þar kemur margt til...Ég fagna því sem þegar hefur áunnist í starfi Tryggingastofnunar varðandi hin rafrænu samskipti. Þá finnt mér ágæt viðleitni TR til að að örva umræðu um almannatryggingar. Þær eru nefnilega sjálfur grunnurinn að velferðarsamfélaginu og mikilvægt að gera okkur öll...20. Ágúst 2007
ENN ERU TIL HUGSJÓNAMENN
Birtist í Fréttablaðinu 19.08.07.
Mikil gerjun er nú í sparisjóðum landsins. Til þeirra var stofnað til að efla samfélagið í héraði, þjóna fólki og fyrirtækjum. Þeir sem lögðu fram stofnfé gerðu það iðulega af hugsjón enda kveðið á um það í lögum að stofnféð mætti aðeins greiða þeim til baka með eðlilegum vöxtum og verðbótum. Gerjunin nú er af tvennum toga. Annars vegar er framhald á tilraunum ýmissa stofnfjáreigenda að gera sér mat úr stofnfjárframlagi sínu langt umfram það sem lög og reglur gera ráð fyrir. Stofnfjárflut sinn vilja þeir geta selt á markaðsprís. Í ljós hefur komið að stofnfjárhlutum hefur að undanförnu verið ráðstafað með það í huga að framundan sé mikil uppskeruhátíð stofnfjáreigenda. Sparisjóðunum megi nú ...
Mikil gerjun er nú í sparisjóðum landsins. Til þeirra var stofnað til að efla samfélagið í héraði, þjóna fólki og fyrirtækjum. Þeir sem lögðu fram stofnfé gerðu það iðulega af hugsjón enda kveðið á um það í lögum að stofnféð mætti aðeins greiða þeim til baka með eðlilegum vöxtum og verðbótum. Gerjunin nú er af tvennum toga. Annars vegar er framhald á tilraunum ýmissa stofnfjáreigenda að gera sér mat úr stofnfjárframlagi sínu langt umfram það sem lög og reglur gera ráð fyrir. Stofnfjárflut sinn vilja þeir geta selt á markaðsprís. Í ljós hefur komið að stofnfjárhlutum hefur að undanförnu verið ráðstafað með það í huga að framundan sé mikil uppskeruhátíð stofnfjáreigenda. Sparisjóðunum megi nú ...
19. Ágúst 2007
AUÐMANNA-ANDAKTIN OG HIN HLIÐIN
![]() Fyrirmyndin Filipus |
18. Ágúst 2007
FALSKAN GÓM Á LAUGAVEGINN, EÐA...?
...Eftir stendur spurningin um hvers konar ásýnd á borginni við viljum hafa. Átökin standa nefnilega ekki bara um gömul hús heldur líka hvað ætti að koma í staðinn væru þau látin víkja. Ef um það væri að tefla að láta umhverfið og fegurðarsjónarmið ráða för mætti að mínu mati stundum skipta út gömlum húsum fyrir ný. En þannig er það ekki í reynd. Í reynd eru það verktakar og braskarar sem eru að kaupa upp lóðir í gríð og erg í miðborg Reykjavíkur til að byggja síðan stórt og mikið með hámarksgróða í huga. Það eru þessir aðilar sem eru að taka völdin og gegn því þarf að sporna. Þess vegna tek ég undir með þeim Guðjóni, Svandísi og Laxness: Verndum það sem fyrir er í stað þess að reisa sálarlausar stórbyggingar eða með skírskotun í myndlíkingu Nóbelsskáldsins...16. Ágúst 2007
SLAGURINN UM SPARISJÓÐINA

...Undanfarna daga hefur þjóðin fylgst agndofa með fréttum af átökum um framtíð sparisjóðanna í landinu. Fjölmiðlar hafa margir gert þessum deilum ágæt skil þótt þeir komist sumir að umdeilanlegum niðurstöðum. Þannig segir í niðurlagi leiðara Viðskiptablaðsins í gær að ...Fyrir átakafundinn í vikunni hafði Bjarni Jónsson, stofnfjáreigandi ritað bréf til Fjármaálaeftirlitsins til þess að inna eftir því hvort fundurinn væri löglegur. Síðan bókaði hann og Gísli Árnason á fundinum athugasemdir sínar. Bréfið og þessar bókanir vekja ýmsar spurningar sem krefjast umræðu og svara. Einnig læt ég fylgja slóðir á fréttatíma þar sem um þetta er fjallað. Ég tek ofan fyrir kraftmikilli framgöngu þessara manna og félaga þeirra sem fara fyrir hópi sem á í höggi við aðila sem einskis svífast í hagsmunabaráttu sinni. Við skulum ekki gleyma því að þeir Bjarni og Gísli eru ekki að berjast fyrir eigin sérhagsmunum heldur almannahag. Það er aðdáunarvert, en því miður að verða alltof sjáldgæft að við verðum vitni að slíku...
8. Ágúst 2007
ÍSLENSKT SUMAR
...Í Lónkoti er nú rekinn matsölustaður og aðstaða fyrir stór og smá mannamót. Þar er sitthvað til minningar um Sölva Helgason, en skáldverk Davíðs Stefánssonar, Sólon Íslandus er byggt á erfiðri ævi hans sem spannaði mest alla 19. öldina. Hann var fæddur á Fjalli í Sléttuhlíð árið 1820 og lést 1895. Lengst af var hann förumaður, þótti alla tíð sérkennilegur, drátthagur með afbrigðum og eru enn til eftir hann margar myndir, listilega vel gerðar. Við kynntumst matsölustaðnum í Lónkoti – Sölvabar - í þessari ferð. Þarna snæddum við einhverja bestu máltíð sem við höfum fengið á nokkrum veitingastað, hráefni úr sveitinni, allt frá fiskinum sem dreginn hafði verið úr skagfirskum sjó til bláberja úr Sléttuhlíðinni og fjóluíssins. Uppskrift hans mun vera viðskiptaleyndarmál eldhússins í Lónkoti. Ég treysti mér að ...6. Ágúst 2007
HVAÐ SEGJA SKATTSKRÁRNAR OKKUR?
Birtist í Blaðinu 05.08.07.
...Staðreyndin er að sjálfsögðu sú að þessir fjárfestar eru á okkar framfæri en ekki öfugt. Þeir eru að höndla með framlag okkar – almennings - til samfélagsins. Hver einasti einstaklingur í landinu er þannig að greiða inn í lífeyrissjóði allt að fimmtung allra tekna sinna, fjármagn sem síðan er að verulegum hluta á markaði, m.a. í höndum fjármálamanna til ráðstöfunar. Sama gildir um hina himinháu vexti – einhverja þá hæstu í heimi – sem við greiðum fyrir afnot af fjármagni. Allt telur þetta í arðsemi og launagreiðslum. Er að undra að samfélagið vilji ...
...Staðreyndin er að sjálfsögðu sú að þessir fjárfestar eru á okkar framfæri en ekki öfugt. Þeir eru að höndla með framlag okkar – almennings - til samfélagsins. Hver einasti einstaklingur í landinu er þannig að greiða inn í lífeyrissjóði allt að fimmtung allra tekna sinna, fjármagn sem síðan er að verulegum hluta á markaði, m.a. í höndum fjármálamanna til ráðstöfunar. Sama gildir um hina himinháu vexti – einhverja þá hæstu í heimi – sem við greiðum fyrir afnot af fjármagni. Allt telur þetta í arðsemi og launagreiðslum. Er að undra að samfélagið vilji ...
25. Júlí 2007
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON

Í dag var haldin í Hallgrímskirkju í Reykjavík minningarhátíð um Einar Odd Kristjánsson, alþingismann og fyrrum formann Vinnuveitendasambands Íslands. Um Einar á ég margar góðar minningar þótt ekki rérum við sama bátnum, hvorki á pólitískum ólgusjó né í stéttarfélagsátökum. Einar var í hinu líðnu. Engu að síður leit ég alltaf á hann sem góðan félaga á öðrum og stærri vettvangi: Hann var góður félagi í íslenska þjóðfélaginu. Góður Íslendingur. Þannig kunni þjóðin að meta hann, sem góðan landa og félaga í mannlífinu. Eftirfarandi eru...
24. Júlí 2007
BESSASTAÐIR EHF?

...En setjum svo að forsetaembættinu skuli beitt í þágu íslenskra útrásarfyrirtækja - sem ég reyndar hef ákveðna fyrirvara á að sé rétt að gera - þá tel ég tvímælalaust að til séu þau mörk sem ekki megi fara yfir. Að mínu mati var farið yfir þau mörk í gær þegar samningur Eimskips var undirritaður í forsetabústaðnum á Bessastöðum. Látum vera að forsetinn bjóði hinum erlendum gestum til móttöku og endurgjaldi þannig þeirra gestrisni - prýðilegt - en undirritun viðskiptasamamningsins átti að mínu mati ekki að fara fram á Bessastöðum. Stórmál? Já. Forsetaembættið er sem betur fer ekki enn orðið ehf þótt flest í kringum okkur sé á leið í einhvers konar markaðspakkningu. Það skiptir máli að í þjóðfélaginu séu fyrir hendi girðingar gegn ásælni ...
21. Júlí 2007
FRÉTTAMENNSKA Á DÝPTINA
...Vandinn er hins vegar sá að með því að skauta um netið og hlusta á fjölmiðla sem leggja sífellt meira upp úr hraða og fídusum er hætt við því að menn verði yfirborðsmennskunni að bráð – jafnvel þekkingarsnauðari en fyrri kynslóðir. Yfirborðsmennska er einmitt vandi nútíma fjölmiðlunar. Á þessu eru til undantekningar. Í dag var til dæmis prýðilegur þáttur í umsjá Þorvaldar Friðrikssonar fréttamanns á RÚV. Fréttaþættirnir uppúr hádegi á laugardögum eru reyndar oft mjög áhugaverðir. Þar er að finna viðleitni til að fara undir yfirborðið og fjalla um málin á dýptina. Þetta er mikilvægt og á Þorvaldur og kollegar þakkir skyldar. Á meðal efnis í þættinum í dag var viðtal við Margréti Guðnadóttur prófessor um rannsóknir hennar á sjúkdómum í sauðfé bæði hér á landi og á Kýpur, tengsl visnurannsókna og eyðnirannsókna og hugsanlega bólusteningu við þessum sjúkdómum, sem ...18. Júlí 2007
"ALLIR ÞEIR SEM FRÉTTASTOFAN TALAÐI VIÐ"

...Nú stendur til að gera Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, að hlutafélagi. Ég skal játa að ég geri mér ekki fyllilega grein fyrir hvað þetta hefur í för með sér og vil þess vegna fá innihaldsríka og gagnrýna umfjöllun um málið. Fréttastofa Sjónvarps sagði okkur í kvöld að allir þeir sem til var leitað teldu þetta jákvætt skref. En spyr sá sem ekki veit: Hverjir voru þessir allir? Hvað er það nákvæmlega sem er svona jákvætt? Er ef til vill eitthvað í þessu máli sem kann að orka tvímælis? Þurfa fréttastofurnar ekki að upplýsa okkur um hvað þarna raunverulega hangir á spýtunni? Við erum alltof lengi búin að horfa upp á handlangara eigin hagsmuna fara sínu fram án þess að þeir hafi þurft að skýra gjörðir sínar. Um daginn voru tilfæringar og hræringar með Samvinnusjóðinn gamla. Fréttastofurnar fóru aldrei í saumana á því máli. Er það ekki hlutverk fjölmiðla að fara sjálfstætt ofan í mál af þessu tagi og ...
17. Júlí 2007
FRAMTÍÐARSÝN FJÁRFESTA
Birtist í DV 16.07.07.
...Ég efast ekki um að hér er mælt af heilindum en ég leyfi mér að halda því fram að mat bæjarstjórans á því sem framtíðin ber í skauti sér er óraunsætt. Eða hver skyldi yfirleitt vera framtíð Geysis Green Energy? Fyrirtæki koma og fara. Þau eru í höndum fjárfesta sem kaupa þessa eign einn daginn og aðra hinn, allt eftir því hvar mesta arðsemi er að finna hverju sinni. Nákvæmlega þess vegna eru fjárfestar á markaði ekki heppilegir eignaraðilar á grunnþjónustu samfélagsins sem þarf að búa við öryggi og festu, einnig - og ekki síst - þegar á móti blæs! Það vakti athygli að Geysir Green mat 15% eignarhlut ríkisins í HS á meira en þreföldu verði á við það sem ríkið hafði slegið á, 7,6 milljarða í stað 2,5. Fjárfestarnir töldu sig með öðrum orðum geta grætt á fjárfestingu sinni þótt þetta há upphæð yrði borguð fyrir eignarhlutinn.
Hver kæmi síðan til með að borga...
...Ég efast ekki um að hér er mælt af heilindum en ég leyfi mér að halda því fram að mat bæjarstjórans á því sem framtíðin ber í skauti sér er óraunsætt. Eða hver skyldi yfirleitt vera framtíð Geysis Green Energy? Fyrirtæki koma og fara. Þau eru í höndum fjárfesta sem kaupa þessa eign einn daginn og aðra hinn, allt eftir því hvar mesta arðsemi er að finna hverju sinni. Nákvæmlega þess vegna eru fjárfestar á markaði ekki heppilegir eignaraðilar á grunnþjónustu samfélagsins sem þarf að búa við öryggi og festu, einnig - og ekki síst - þegar á móti blæs! Það vakti athygli að Geysir Green mat 15% eignarhlut ríkisins í HS á meira en þreföldu verði á við það sem ríkið hafði slegið á, 7,6 milljarða í stað 2,5. Fjárfestarnir töldu sig með öðrum orðum geta grætt á fjárfestingu sinni þótt þetta há upphæð yrði borguð fyrir eignarhlutinn.
Hver kæmi síðan til með að borga...
15. Júlí 2007
OKRIÐ MEIRA Á ÍBÚÐAKAUPENDUM!
Birtist í Morgunblaðinu 14.07.07.
...Niðurstaðan er þessi. Ríkisstjórnin telur að lánskjör íbúðalána séu of góð, það þurfi að takmarka aðgang að lánsfé á þeim "kostakjörum" sem Íbúðalánsjóður býður og hvetja bankana til að okra meira! Hvernig var það annars, er það ekki Samfylkingin sem tíðrætt hefur orðið um "Evrópuvexti"? En eru þeir ekki stórhættulegir? Er ekki stórhættulegt að lækka vextina, myndi íbúðaverð ekki margfaldast með þeim afleiðingum að enginn gæti keypt neitt, svo hátt yrði verðlagið? Samkvæmt skilaboðum félagsmálaráðherra og hvatningu um meira okur á íbúðakaupendum mætti halda að vaxtalækkun væri af hinu illa. Mikið væri annars gaman ef Samfylkingunni tækist að vera sjálfri sér samkvæm í málflutningi sínum, þó ekki væri nema í þessum málaflokki.
...Niðurstaðan er þessi. Ríkisstjórnin telur að lánskjör íbúðalána séu of góð, það þurfi að takmarka aðgang að lánsfé á þeim "kostakjörum" sem Íbúðalánsjóður býður og hvetja bankana til að okra meira! Hvernig var það annars, er það ekki Samfylkingin sem tíðrætt hefur orðið um "Evrópuvexti"? En eru þeir ekki stórhættulegir? Er ekki stórhættulegt að lækka vextina, myndi íbúðaverð ekki margfaldast með þeim afleiðingum að enginn gæti keypt neitt, svo hátt yrði verðlagið? Samkvæmt skilaboðum félagsmálaráðherra og hvatningu um meira okur á íbúðakaupendum mætti halda að vaxtalækkun væri af hinu illa. Mikið væri annars gaman ef Samfylkingunni tækist að vera sjálfri sér samkvæm í málflutningi sínum, þó ekki væri nema í þessum málaflokki.
8. Júlí 2007
FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFIÐ: UPPSTOKKUNAR ÞÖRF
Niðurskurður aflaheimilda kemur eins og reiðarslag fyrir mörg byggðarlög. Ekki að undra að mikil og tilfinningaþrungin umræða skuli kvikna í þjóðfélaginu enda þarf að spyrja grundvallarspurninga við slíkar aðstæður. Gæta þarf að því að rugla ekki saman ólíkum þáttum. Eitt eru rannsóknir sérfræðinga Hafrannsóknarstofnunar, annað er það fiskveiðistjórnunarkerfi sem við búum við. Þegar ráðleggingum fiskifræðinga er hrint í framkvæmd skarast hins vegar þetta tvennt því fiskveiðistjórnunarkerfið skapar þær skorður sem ráðgjöfum okkar og sérfræðingum eru settar. Nú fjölgar í hópi efasemdarmanna um það stjórnkerfi í fiskveiðum sem verið hefur við lýði. Kvótakerfið sem...7. Júlí 2007
HVER ER SANNLEIKURINN UM EINKAVÆÐINGU RAFORKUGEIRANS?
DV birtir iðulega áhugaverðar greinar. Ein slík birtist síðastliðinn fimmtudag eftir Jóhann Hauksson, Morgunhanann á Útvarpi Sögu. Jóhann er gamalreyndur fréttamaður sem hefur orðið mikla hlustun þegar hann sjálfur veltir vöngum eða ræðir við aðra í fréttaviðtölum á Útvarpi Sögu. Í umræddri grein sinni í DV, sem fjallar um einkavæðingu raforkugeirans undir titlinum Vítin eru til að varast, segir Jóhann Hauksson m.a.:...
30. Júní 2007
EINKAVÆÐING RAFORKUGEIRANS BITNAR Á ALMENNINGI
Í fréttaviðtali var Ásgeir Margeirsson, framkvæmdastjóri hjá Geysi Green Energy, sem nú reynir að komast yfir Hitaveitu Suðurnesja, spurður hvort ekki væri hætta á því að einkavæðing raforkugeirans gæti leitt til hærra raforkuverðs. Nei, Margeir hafði ekki áhyggjur af því og sagði hann nokkurs misskilnings hafa gætt í þessari umræðu. Þar sem virkur samkeppnismarkaður væri til staðar, sagði hann, þá væri raforkumarkaðurinn eins og hver annar markaður. Ef einn aðili hækkar verð á raforku þá flytji menn viðskiptin til annars aðila. "Það er ekkert flóknara en það", sagði þessi talsmaður fjárfestanna...Það sem ég hins vegar sakna úr orðræðu Hafnarfjarðarkrata er sá tónn sem kemur frá VG í Hafnarfirði og minnihlutanum í Reykjanesbæ. Eftirfarandi er haft eftir Eysteini Jónssyni, bæjarfulltrúa minnihlutans á eyjunni.is í dag...
29. Júní 2007
ERU PRENTMIÐLARNIR AÐ SÆKJA Í SIG VEÐRIÐ?

Gengi íslenskra dagblaða hefur verið sveiflukennt. Ég er alinn upp við blaðaútgáfu sem endurspeglaði fjórflokkinn: Mogginn var blað Sjálfstæðisflokksins, Þjóðviljinn Alþýðubandalagsins, Alþýðublaðið var málgagn Alþýðuflokksins og Tíminn Framsóknarflokksins. Síðan voru vikublöð, Mánudagsblaðið fyrr á tíð og Helgarpósturinn og síðan Pressan svo eftirminnilegustu blöðin séu nefnd. Þegar komið var fram á níunda áratug síðustu aldar fór að bera meira á gagnrýni á flokksmálgögnin. Fólk vildi það sem kallað var “málefnaleg” fréttablöð en ekki “pólitísk”. Fljótlega fór gamla kerfið að riðlast, Tíminn varð að NT tímabundið og enn síðar að Degi, Mogginn staðhæfði að hann væri ópólitískur í fréttaskrifum og stæði öllum skoðunum opinn og úr öðrum ritstjórnarskrifstofum heyrðust svipuð hljóð. Ekki má gleyma Vísi og DV sem alla tíð kváðust vera óháð fréttablöð. Landsbyggðablöðin eru heldur ekki ný af nálinni...
28. Júní 2007
S-HÓPURINN, HVAÐ ER NÚ ÞAÐ?
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað skýri þær tilfæringar sem nú eiga sér stað við slitin á Samvinnutryggingum. Nokkrar blaðagreinar hafa birst um efnið en tilefnið hefði ég haldið að kallaði á miklu meiri umfjöllun. Ég vona að Fjármálaeftirlitið hafi kannað málið og viðskiptaráðherrann að sama skapi svo hann verði undir það búinn að skýra þessi mál fyrir hönd eftirlitsaðila þegar Alþingi kemur saman...Án þess að ég geti fullyrt eitt eða neitt um ráðstöfun fjármuna Samvinnutrygginga í þágu flokksgæðinga Framsóknarflokksins þá leyfi ég mér engu að síður að fullyrða að Þórólfur Gíslason hefur eflaust komist nærri því að slá heimsmet í óskammfeilni í framangreindu viðtali. Í viðtalinu kveðst hann ekki átta sig neitt á því hvað átt sé við með S-hópnum! Hann kunni engin skil á honum!! Ætli...18. Júní 2007
SUMARIÐ OG LANDIÐ
...Á meðal eldra efnis var endurfluttur þáttur Gunnars Stefánssonar frá árinu 1997 með upplestri Andrésar Björnssonar, fyrrverandi útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins. Andrés Björnsson fór fyrir Ríkisútvarpinu í nær tvo áratugi. Andrés var mikill andans og menningarinnar maður og lyfti öllu því sem hann kom nærri á æðra plan. Þessi ágæti þáttur Gunnars Stefánssonar, Sumarið og landið, minnir á mikilvægi þess að hlú að íslenskri menningu og þeim gildum sem hún hvílir á. Ég er sannfærður um að gróskumikil og innihaldsrík menning er sá besti jarðvegur sem hugsast getur fyrir sköpunarkraft og frjóa hugsun með þjóðinni. Menningararfur þjóðarinnar hefur reynst henni gott vegarnesti – og án nokkurs efa er það varanlegra en...10. Júní 2007
Í MIÐJUNNI: FÓRNARLAMB ÞOTULIÐSINS

...Þetta er heimurinn sem nú hefur skammtað Davíð Oddssyni launahækkun á mánuði sem nemur hærri upphæð en mánaðarlaun láglaunamanns. Einu sinni arkaði Davíð, þá forsætisráðherra, niður í Búnaðarbanka að taka út einhverja aura sem hann átti þar til að mótmæla því – að því er mig minnir – að rekendur bankans væru að hygla sjálfum sér. Davíð Oddsson situr nú sem fastast þegar krónurnar streyma í hans eiginn vasa. Hann veit sem er að hann er fórnarlamb þotuliðsins; milljarðamæringanna sem halda Íslandi í gíslingu og innleiða misrétti á öllum sviðum þjóðfélagsins...Alveg eins og forsætisráðherrann sem mótmælti hefur verkalýðshreyfingin oft arkað niður á Lækjartorg og mótmælt því þegar hálaunamenn hafa hrifsað til sín margfalt hærri laun en almenningur nýtur. Spurning er hvort ...
9. Júní 2007
STÓRKOSTLEG STUND Í BOÐI BSRB Í MUNAÐARNESI!

Í dag var haldin menningarhátíð í Munaðarnesi. Opnuð var sýning á myndlist Guðbjargar Hákonardóttur, Guggu, en verk hennar verða til sýnis í allt sumar í félagsmiðstöð orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi. Þar rekur Ásta
8. Júní 2007
ÖLL VELKOMIN Á MENNINGARHÁTIÐ Í MUNAÐARNESI
Laugardaginn 9. júní kl. 14 verður opnuð sýning á verkum myndlistarkonunnar Guðbjargar Hákonardóttur, Guggu í miðstöð orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi í Borgarfirði. Af þessu tilefni er efnt til menningarviðburðar þar sem ýmsir fremstu listamenn okkar koma fram. Steinunn Sigurðardóttir, rihöfundur les úr verkum sínum og flutt verður tónlist. Auður Hafsteinsdóttir leikur á fiðlu, Bryndís Halla Gylfadóttir leikur á selló og Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur á píanó. Að þessu loknu verður boðið upp á...6. Júní 2007
FYRST BORGARALEG HANDTAKA, HVAÐ SVO, DÓMSTÓLL GÖTUNNAR?

... Hluti af fyrirbyggjandi starfi er síðan góð löggæsla. Sýnileg löggæsla á götum úti leiðir án efa til þess að ofbeldissinnað fólk situr á sér. En það kostar peninga að fjölga í lögreglunni. Þess vegna er nú leitað að ódýrari lausnum. Svo virðist sem borgaryfirvöld séu í fullri alvöru að leita fyrir sér hjá öryggisfyrirtæki, Dyravörðum ehf., um að taka að sér öryggiseftirlit í borginni. Samkvæmt því sem fram hefur komið í fréttum er rætt um að fyrirtækið fái heimild til að annast „borgaralegar handtökur“! Hvað er „borgaraleg handtaka“? Er það ekki...
30. Maí 2007
HVAÐ SEGJA VANDLÆTINGARMENN NÚ?
Birtist í Morgunblaðinu 29.05.07.
...John Stuart Mill, hinn mikli heimspekingur 19. aldar hefur skrifað flestum mönnum betur um frelsi einstaklingsins, réttindi minnihlutahópa og um lýðræðið. Hann lagði áherslu á að allir ættu að vera frjálsir og að enginn hefði rétt á því að hlutast til um málefni annars einstaklings að því tilskildu að hann skaðaði ekki aðra.
Nauðgun er ofbeldi gagnvart öðrum og hefur ekkert með tjáningarfrelsið að gera. Nauðgun er einfaldlega glæpur og á sér enga málsvörn. Það er svívirða gagnvart tjáningarfrelsinu að nota það til að réttlæta þetta alvarlega ofbeldi. Ef einhverjir vilja græða á löngunum manna til að meiða annað fólk þá á að ræða það í öðru samhengi en því sem gert er hér að framan...
...John Stuart Mill, hinn mikli heimspekingur 19. aldar hefur skrifað flestum mönnum betur um frelsi einstaklingsins, réttindi minnihlutahópa og um lýðræðið. Hann lagði áherslu á að allir ættu að vera frjálsir og að enginn hefði rétt á því að hlutast til um málefni annars einstaklings að því tilskildu að hann skaðaði ekki aðra.
Nauðgun er ofbeldi gagnvart öðrum og hefur ekkert með tjáningarfrelsið að gera. Nauðgun er einfaldlega glæpur og á sér enga málsvörn. Það er svívirða gagnvart tjáningarfrelsinu að nota það til að réttlæta þetta alvarlega ofbeldi. Ef einhverjir vilja græða á löngunum manna til að meiða annað fólk þá á að ræða það í öðru samhengi en því sem gert er hér að framan...
12. Maí 2007
ÞAÐ ER OKKAR AÐ VELJA

Í áhrifaríkri útvarpspredikun sunnudaginn 29. apríl vék séra Gunnþór Ingason, prestur í Hafnarfirði að þeim átakamálum sem setja svip á stjórnmálaátök líðandi stundar. Séra Gunnþór varpaði fram þeim spurningum sem fólk hljóti að velta fyrir sér. Annars vegar velferðarmálum og hins vegar umhverfismálum. Hann segir m.a.: "Geta frambjóðendur til komandi alþingiskosninga veitt þeim annað og meira en gyllivonir? Hverju má treysta í stefnuyfirlýsingum þeirra um lífsvernd og bættan hag?
Verður gætt að misskiptingu kjara og fátækum sinnt, sem týnst hafa í velferðinni og verður brugðist raunhæft við ógnandi umhverfisvá?... Í Alþingiskosningum veljum við hvaða áherslur við viljum hafa við landsstjórnina á komandi árum. Áherslurnar sem nú er tekist á um er hvort áfram eigi að halda á braut stórvirkjana fyrir mengandi stóriðju eða búa í haginn fyrir fjölbreytt atvinnulíf. Það er líka tekist á um velferðarmál; hvort útrýma eigi fátækt og draga úr misskiptingu í þjóðfélaginu. Kjósendur þekkja afstöðu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs...
3. Maí 2007
UPPLÝST Í BORGARSTJÓRN: RÍKISSTJÓRNIN HEFUR EKKI SINNT LÖGBOÐNUM SKYLDUM Í BARNAVERNDARMÁLUM
...Í ræðu sinni benti Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi VG, á að ríkisstjórnin hefur ekki fullnægt lagalegum skyldum sínum á sviði barnaverndarmála um nokkurt árabil. Þrátt fyrir alla umræðuna um kynferðislegt og annað ofbeldi gagnvart börnum, þrátt fyrir að fram hafi komið að tilkynningum til barnaverndaryfirvalda í Reykjavík hafi fjölgað um 10% á ári undanfarin fimm ár - um 27% á einu ári 2005-2006! - virðist hafa ríkt fullkomið andvaraleysi og doði hjá ríkisstjórninni. Ekki er einu sinni sinnt lögboðnum skyldum. Í ræðu sinni hrósaði Þorleifur Gunnlaugsson starfsfólki sem sinnir þessum málum hjá ríki og Reykjavíkurborg en gagnrýndi harkalega hvernig að þessari starfsemi væri búið. Ég skora á fjölmiðla að kynna sér það sem fram kom í máli varaborgarfulltrúans um þetta efni. Sjálfur hef ég leitað eftir staðfestingu félagsmálaráðuneytisins... 28. Apríl 2007
FJALLAGRÖS OG SAUÐSKINNSSKÓR
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, tók sig vel út í ræðustól á málþingi sem haldið var í dag undir yfirskriftinni FJALLAGRÖS OG SAUÐSKINNSSKÓR en það fór fram í Straumi í Hafnarfirði. Á málþinginu var sjónum einkum beint að nýsköpun í atvinnurekstri. Sveinn flutti mjög fróðlegt erindi. Hann varði nokkrum tíma í skilgreiningar á hugtökum. Sagði t.d. að fólk tengdi stundum sprotafyrirtæki stærð og umfangi starfseminnar. Það væri á misskilningi byggt. Um væri að ræða að viðkomandi fyrirtæki væri að minnsta kosti að tíunda hluta veltunnar byggt á rannsókna- og þróunarverkefni. Sveini varð tíðrætt um verðmætasköpun og varaði við "fölskum hagvexti", "hagvexti sem tekinn væri að láni". Okkur væri lífsnauðsynlegt að tryggja hagvöxt sem...26. Apríl 2007
JÓNÍNA BJARTMARZ, UMHVERFISVERÐLAUNIN OG HINAR SYRGJANDI MÆÐUR

Á degi umhverfisins – sem var í gær - taldi Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra Framsóknarflokksins rétt að veita auðhringnum Bechtel sérstök verðlaun, Kuðunginn, sem er umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins. Vel kann að vera að fyrirtækið hafi staðið sig vel hvað varðar öryggisreglur við byggingu álversins á Reyðarfirði, en vandséð er hvernig mengandi stóriðja á skilið sérstök umhverfisverðlaun. Að verðlauna fyrirtækið af því það “vinnur eftir umhverfiskerfi sem dregur stórlega úr líkum á umhverfisslysum og mengun” er umhugsunarefni. Hefði mátt ætla að ríkisstjórnin hefði gert ítrustu kröfur í þeim efnum að skilyrði fyrir leyfisveitingu. En þetta minnir okkur líka á að ...
22. Apríl 2007
Í HEIMSÓKN HJÁ TALSMANNI NEYTENDA
...Það má segja að stjórnmálamenn séu á hálum ís að agnúast út í auglýsingamennsku á sama tíma og stjórnmálaflokkarnir auglýsa án afláts. Í því sambandi vil ég þó segja fyrir mitt leyti að ég hef aldrei verið á móti auglýsingum. Þær eru mikilvægar ef þær gefa réttar og góðar upplýsingar. Það getur þannig verið réttlætanlegt að birta mynd af frambjóðanda til að minna á að hann er í framboði en þarna er hinn gullni vegur vissulega vandrataður. Sú krafa sem fólk hlýtur að gera til stjórnmálaflokka eins og fyrirtækja er að auglýst sé á réttum forsendum eða svo vitnað sé aftur í fyrrnefnda grein á heimasíðu Talsmanns neytenda: "Auðvitað eigum við að gera kröfu til fyrirtækja að þau auglýsi vörur sína og þjónustu á réttum forsendum og segi okkur satt og rétt frá. Við viljum ekkert fá að heyra um fífilbrekkur og gróin tún eða ást á landi og þjóð þegar við heyrum frá Kaupþingi, Glitni eða Landsbanka. Við viljum heyra um lánakjörin, hve háir vextir eru, til hve langs tíma sé lánað, um verðtryggingu, uppgreiðslugjöld og ...19. Apríl 2007
SKÁTAMESSA OG NESHRINGURINN

...Margrét Tómasdóttir, skátahöfðingi, minntist þess að fljótlega eftir stofnun skátafélaga hér á landi hefði sr. Friðrik Friðriksson farið með skátaflokk, Væringja, um götur Reykjavíkur, á sumardaginn fyrsta að því er mér skildist, syngjandi sálma á latínu! Einhvern veginn var þessi frásögn – eða öllu heldur svipmynd - sem brugðið var upp sérlega grípandi vegna stórbrunans í Austurstræti í gær þar sem ...Mynd hér að ofan er frá göngunni um Seltjarnarnesið þegar staðnæmst var við Kviku sem er útilistaverk sem hægt er að dýfa í fótum. Verkið, sem er eftir Ólöfu Nordal, stendur á Kisuklöppum í fjörunni við Norðurströnd og er óvenjulegt að því leyti að gestir og gangandi geta baðað fætur sína í því. Verkið er gert úr heilum grágrýtissteini sem í er sorfin hringlaga fótbaðs- eða vaðlaug...Göngutúrinn var mjög fróðlegur og stórskemmtilegur. Til hamingju Seltirningar með framtak Kristínar Þorsteinsdóttur. Megi fyrirtæki hennar, NESHRINGURINN, eiga bjarta framtíð.
17. Apríl 2007
TÖKUM ÞÁTT Á UNDIRSKRIFTASÖFNUN TIL STUÐNINGS SAMFÉLAGSÞJÓNUSTUNNI!

...Verkalýðshreyfingin í Evrópu (ETUC, sem BSRB og ASÍ eiga aðild að, og EPSU, sem BSRB á aðild að) hefur skorið upp herör gegn þessari þróun og hvetur nú til undirskriftasöfnunar í því skyni að verja velferðarþjónustuna...Vilji fólk á annað borð verja þessa þjónustu verður að sýna það í verki. Á heimasíðu BSRB er fjallað nánar um undirskriftasöfnunina og hvernig menn beri sig að við að taka þátt í henni. Ég beini eindreginni ósk til ALLRA að taka þátt, sjá HÉR...
15. Apríl 2007
HVAÐ ÞYRFTI LÖNGUSKERJABRAUTIN AÐ STANDA HÁTT?

Þessa mynd tók ég á grasinu ofan við fjöruna á Ægisíðunni við Skerjafjörðinn góða. Í fjarska sæist í Löngusker ef myndin væri betri. Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin eyrum þegar ég heyrði að nefnd hefði komist að þeirri niðurstöðu að Löngu
15. Apríl 2007
MÚRAR ERU ENGIN LAUSN
Birtist í Fréttablaðinu 14.04.07.
Nokkuð hefur verið rætt um innflytjendapólitík að undanförnu. Flest okkar höfum við þá afstöðu að við viljum að eins vel sé komið fram gagnvart útlendu aðkomufólki og við viljum að gert sé gagnvart okkur þegar við erum í útlöndum. Sjálfur hef ég reynslu af því að vera búsettur erlendis og er hlýtt til þeirra þjóða sem ég hef dvalist hjá, ekki síst vegna þess hve vel mér var tekið. Þetta breytir því ekki að bráðnauðsynlegt er að ræða innstreymi erlends launafólks til landsins, í hve miklum mæli við viljum og getum tekið á móti aðkomufólki svo sómasamlegt sé. Einnig þarf að hafa í huga að atvinnulíf verði ekki sveiflukennt þannig að á víxl gangi á með ofsaþenslu og síðan fjöldaatvinnuleysi. Jafnvægi er heillavænlegra fyrri atvinnulífið og samfélagið...
Nokkuð hefur verið rætt um innflytjendapólitík að undanförnu. Flest okkar höfum við þá afstöðu að við viljum að eins vel sé komið fram gagnvart útlendu aðkomufólki og við viljum að gert sé gagnvart okkur þegar við erum í útlöndum. Sjálfur hef ég reynslu af því að vera búsettur erlendis og er hlýtt til þeirra þjóða sem ég hef dvalist hjá, ekki síst vegna þess hve vel mér var tekið. Þetta breytir því ekki að bráðnauðsynlegt er að ræða innstreymi erlends launafólks til landsins, í hve miklum mæli við viljum og getum tekið á móti aðkomufólki svo sómasamlegt sé. Einnig þarf að hafa í huga að atvinnulíf verði ekki sveiflukennt þannig að á víxl gangi á með ofsaþenslu og síðan fjöldaatvinnuleysi. Jafnvægi er heillavænlegra fyrri atvinnulífið og samfélagið...
8. Apríl 2007
GLEÐILEGA PÁSKA
Páskarnir eru góður tími. Fyrir þorra fólks er samfelldur frítími frá lokum vinnudags á miðvikudegi og fram á þriðjudagsmorgun. Vaktavinnufólkið þarf hins vegar að standa sína pligt alla páskahelgina, nótt sem dag. Það á við um heilbrigðisstéttirnar, löggæslu- og öryggisstéttir auk þess sem það færist í vöxt að verslun og þjónusta standi til boða öllum stundum og eru páskarnir þar ekki undanskildir.Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað æskilegt sé í þessu efni, hvers konar þjóðfélag við viljum. Viljum við þjóðfélag þar sem stefnt er að því að sem flestir geti tekið frí á sama tíma eða viljum við þjóðfélag sem þekkir ekki mun á nóttu og degi, helgum eða rúmhelgum dögum? Síðari kosturinn er vissulega þægilegur. Það er gott að komast í búðina hvenær sem er eða geta nálgast hverja þá þjónustu sem hugsast getur þegar maður þarfnast hennar. Þjóðfélagið er að þróast í þessa átt. Á móti er þá hitt sjónarmiðið, nefnilega það að fjölskyldur sundrist í fríum. Einn þarf að ...
6. Apríl 2007
PÍSLARGANGAN Í HAFNARFJARÐARKIRKJU OG HÁGÆÐA TÓNLIST

Séra Gunnþór Ingason, sóknarprestur í Hafnafjarðarkirkju, efndi í dag – Föstudaginn langa - til sérstakrar vöku í kirkju sinni þar sem hann fékk fulltrúa fjögurra stjórnmálaflokka til þess að lesa úr Jóhannesarguðspjalli um Píslargöngu Krists. Auk mín lásu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Samúel Örn Erlingsson og Árni Páll Árnason. Þegar við höfðum lokið lestrinum svöruðum við spurningunni hvað Píslarsagan segði okkur. Þetta gerðum við hvert á sinn hátt.
Stundin í Hafnarfjarðarkirkju er eftirminnileg, ekki síst vegna þeirrar tónlistar sem flutt var. Guðmundur Sigurðsson lék listavel á orgel og fiðluleikur Hjörleifs Valssonar var með hreinum ólíkindum. Fólk sat sem bergnumið í kirkjunni. Kirkjukór Hafnarfjarðarkirkju söng en forsöngvari var Þórunn Björnsdóttir, sem ...
3. Apríl 2007
NÚ VILJA ALLIR VERA HAFNFIRÐINGAR !
...Nú segja fjölskyldurnar í landinu og forsvarsmenn fyrirtækja í vaxandi mæli að nóg sé komið. Hafnfirðingum birtust öfgar þessarar stóriðjuáráttu þegar ætlast var til þess að þeir greiddu götu þess að innan bæjarmarkanna yrði rekin stærsta álverkasmiðja Evrópu. Það fór svo að Hafnfirðingar sneru þessu tafli við. Grasrótarsamtökin Sól í Straumi áttu að sönnu samstarf við systursamtök annars staðar á landinu; grasrótarsamtökin sem kenna sig við Sólina. Þau samtök urðu fyrst til í Hvalfirðinum og eru nú að eflast á Reykjanesi og Suðurlandi. Vegna árangurs Hafnfirðinga er Hafnarfjörður nú orðinn táknrænn fyrir árangursríka baráttu í þágu...1. Apríl 2007
HAFNFIRÐINGAR HAFA GEFIÐ TÓNINN

Með niðurstöðu úr atkvæðagreiðslunni í Hafnarfirði hafa orðið þáttaskil í langvarandi deilum um virkjanastefnu/ stóriðjustefnu/atvinnustefnu/efnahagsstefnu á Íslandi. Meirihlutinn valdi varfærni, telur greinilega nóg komið af stóriðju innan bæjarmarkanna. Þá er ég ekki í vafa um að fólk hefur horft heildstætt á málin, með tilliti til virkjana sem þyrftu að koma til sögunnar svo fóðra mætti hina stækkuðu verksmiðju og þá einnig til efnahagslegra afleiðinga. Menn vita hvað áframhaldandi hávaxtastefna þýðir fyrir fjárhag fyrirtækja og einnig heimilsbókhaldið. Þjóðin hefur þurft að búa við ríkisstjórn sem ekkert hefur séð annað í kortum framtíðarinnar en ál og aftur ál. Þannig hefur Framsóknarflokkurinn lýst því yfir að álframleiðsla eigi að verða að minnsta kosti þriðjungurinn af efnahagsstarfsemi þjóðarinnar! Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið undir með gjörðum sínum. Þetta er...
1. Apríl 2007
VILJUM VIÐ AÐ ÞAU VÍSI VEGINN INN Í FRAMTÍÐINA?
...Á sama tíma og Hafnfirðingar greiddu atkvæði um hvort heimila eigi stækkun álversins í Straumsvík flugu þau Valgerður Sverrisdóttir (Framsóknarflokki) og Geir H. Haarde (Sjálfstæðisflokki), sem sérstakir heiðursgestir Alcoa til Reyðarfjarðar að skála fyrir opnun álversins þar. Spurning er hvers vegna Valgerður, sem nú gegnir stöðu utanríkisráðherra sem kunnugt er, fer þessara erindagjörða fremur en núverandi iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson. Valgerður þykir án efa vel að því komin að fagna opnun þessarar verksmiðju enda framganga hennar í þágu Alcoa og stóriðju almennt...31. Mars 2007
ÖRLAGARÍK KOSNING Í HAFNARFIRÐI

...Álrisinn hefur verið látinn komast upp með að ausa fé í kosningabaráttuna; bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa því miður ekki orðið við óskum um að févana grasrótarsamtökum – Sól í Straumi – yrði veittur myndarlegur stuðningur til mótvægis auðhringnum. Ríkisstjórnin hefur látið óátalið frekleg afskipti álrisans af lýðræðislegum kosningum í Hafnarfirði og minnir það óþægilega á undirgefni svokallaðra bananaríkja gagnvart auðhringum sem tekið hafa sér bólfestu á þeirra landi. En það er ekki einu sinni svo gott að ríkisstjórnin þegi. Hún tekur beinlínis þátt í áróðri Alcans, bæði beint og óbeint. Runólfur skrifar stórgott bréf til síðunnar sem ég hvet alla til að lesa. Hann setur viðhafnarveislu Alcoa á Reyðarfirði í dag í samhengi sem vert er að...
31. Mars 2007
ÞVÍ MEIRA ÁL ÞVÍ MINNA AF ÖÐRU
Birtist í Morgunblaðinu 30.03.07.
...Í fyrsta lagi eru aðstæður allt aðrar á Íslandi nú en fyrir 12 árum. Þá voru framleidd 90 þúsund tonn af áli í landinu. Nú eru komnar heimildir fyrir 916 þúsund tonnum og yrði talan 1.106 þúsund tonn ef Alcan í Straumsvík fengi sínu framgengt! Læt ég þá ótalin áformuð álver á Húsavík og í Helguvík. Á það er að líta að þau rök sem áður voru sett fram um að við ættum ekki að reiða okkur um of á sjávarútveginn, hafa ekki öll eggin í sömu körfunni, eru nú að snúast upp í andhverfu sína. Nú eru menn að setja öll eggin í álkörfu! Árið 1995 var heildarframleiðsla raforku...
...Í fyrsta lagi eru aðstæður allt aðrar á Íslandi nú en fyrir 12 árum. Þá voru framleidd 90 þúsund tonn af áli í landinu. Nú eru komnar heimildir fyrir 916 þúsund tonnum og yrði talan 1.106 þúsund tonn ef Alcan í Straumsvík fengi sínu framgengt! Læt ég þá ótalin áformuð álver á Húsavík og í Helguvík. Á það er að líta að þau rök sem áður voru sett fram um að við ættum ekki að reiða okkur um of á sjávarútveginn, hafa ekki öll eggin í sömu körfunni, eru nú að snúast upp í andhverfu sína. Nú eru menn að setja öll eggin í álkörfu! Árið 1995 var heildarframleiðsla raforku...
30. Mars 2007
JÓIRAGNARS.BLOG.IS FYLLIR INN Í MYNDINA Í SNÆFELLSBÆ
...Tilefni þessara hugleiðinga er ofurlítið langsótt. Það varð mér umhugsunarefni í sumar þegar bæjarblaðið Jökull í Snæfellsbæ neitaði mér um birtingu á grein um uppsagnir starfsmanna í bæjarfélaginu. Þessar uppsagnir hafði blaðið fjallað um og birt greinar um efnið. Ég vildi skýra mín sjónarmið í málinu en að því kom ég sem formaður í heildarsamtökum launafólks. Ritstjóri ætlaðist til þess að grein mín yrði skorin niður við trog – aðeins þannig fengist hún birt – enda þótt hún væri talsvert styttri en aðrar greinar sem birst höfðu um þetta tiltekna málefni í blaðinu. Þetta kallast ritskoðun og varð til þess að ég sendi grein mína á hvert einasta heimili í Snæfellsbæ með aðstoð okkar ágætu...30. Mars 2007
ER ALCAN ÍBÚI Í HAFNARFIRÐI?
Birtist í Fjarðarpóstinum 29.03.07....Framhjá hinu verður þó ekki horft að Hafnfirðingar eru þrátt fyrir allt að taka ákvörðun um deiliskipulag sem snertir sérstaklega þeirra byggð og framtíðarmöguleika hennar. Sumum finnst að með því að reisa stærstu álverksmiðju Evrópu nánast inni í Hafnarfirði sé verið að torvelda frekari byggðarþróun á þessu fagra svæði og auka mengun fyrir stundarhagnað; ávinning sem auk þess mætti ná með öðrum hætti. Aðrir líta á það sem mikla gæfu að hafa þennan risastóra og stækkandi vinnustað innan bæjarmarkanna. Sjálfur er ég á þeirri skoðun að atkvæðagreiðslan í Hafnarfirði komi öllum landsmönnum við þótt ég sjái einnig sérstöðu Hafnfirðinga og virði hana. Gefum okkur að Hafnfirðingar eigi einir að útkljá málið með því að sannfæra hvern annan um rétt og rangt í þessu efni og að engir aðrir eigi þar að koma að máli – hvorki með áróður né með fjármagn. Fróðleg spurning að fá svar við væri þá þessi...
27. Mars 2007
HÁSPENNA FÆRIR ÚT KVÍARNAR VIÐ HLEMM

Spílavíti dótturfyrirtækis Háskóla Íslands, sem ber hið smekklega heiti Háspenna (nafn sem væntanlega á að höfða sérstaklega til fólks sem haldið er spennufíkn) er nú að stækka við sig við Hlemmtorgið í Reykjavík, auka á Gullregnið eins þeir nefna það m.a. svo snoturlega. Ekki er beinlínis hægt að fagna þeim tíðindum enda hýsir Háspenna það sem Vilhjálmur Þ. borgarstjóri hefur réttilega kallað ógæfukassa. Sjónvarpið flutti um þetta ágæta frétt. Eitt ætla ég þó að leyfa mér að efast um sem fram kom í fréttinni. Það er sú staðhæfing ...
22. Mars 2007
TVENNT TIL UMHUGSUNAR Í TILEFNI SKRIFA TALSMANNS SAMORKU
Gústaf Adolf Skúlason18. Mars 2007
ÞRJÁR SPURNINGAR SIGURÐAR – ÞEIM VERÐUR AÐ SVARA !

...Í bréfi Sigurðar Bjarnasonar til heimasíðunnar er spurt þriggja grundvallarspurninga. Í fyrsta lagi telur Sigurður að með stækkun álversins væri Hafnarfjörður að loka fyrir þróun byggðar sem teldi 20 til 30 þúsund manns og "fórna strandlengjunni og hraununum suður á bóginn fyrir álverið." Og Sigurður spyr: Hvers vegna "tapa þróunarsamkeppni byggðarlaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir Gunnari Birgissyni?" Í öðru lagi spyr Sigurður hvort ekki hafi verið settar reglur um hámarksgreiðslur stjórnmálaflokkanna í kosningaáróður? "Hvernig má það þá vera að auðhringurinn fær að sáldra um sig gullinu eins og ekkert sé?" Í þriðja lagi spyr Sigurður um lýðræðið.: "Er það lýðræði að ...
17. Mars 2007
VILDU LÖGÞVINGA VEGAGERÐINA TIL AÐ EINKAVÆÐA ALLA STARFSEMI SÍNA!
Makalausasta ákvæðið var þó að finna í 4. grein frumvarpsins þar sem sagði: "Vegagerðin skal við framkvæmd vegamála leitast við að bjóða út alla hönnun, nýbyggingar, viðhald, þjónustu og eftirlit." Takið eftir, hún skal svo fremi sem kostur er einkavæða. Ekki bara sumt, heldur allt. Ekki gerir VG athugasemdir við heimildir til handa Vegagerðinni að bjóða út einstök verkefni og framkvæmdir. Ef svona ákvæði væri hins vegar sett í lög væri hægt að kæra Vegagerðina fyrir að bjóða ekki út starfsemi sem fyrirtæki á markaði sæktust eftir. Þau hefðu á grundvelli þessa lagaákvæðis getað knúið Vegagerðina til þess að láta af hendi verkefni sem hún nú sinnir. Í greinargerð með ákvæðinu segir...14. Mars 2007
GESTUR, DV, GUÐRÚN ÁGÚSTA...ER HINUM SAMA?
Mér finnst DV eiga lof skilið fyrir að birta grein Gests Svavarssonar sem birtist í Morgunpósti VG í fyrradag og var vísað til hér á síðunni í gær. Þar reifar Gestur málefni sem eru kjarnlæg fyrir lýðræðið. Hann vekur athygli á því að stjórnmálmenn setji skorður við því að fyrirtæki reyni að hafa áhrif á afstöðu pólitískra flokka með því að reyna að kaupa þá með fjárframlögum til fylgilags við sig. Á sama tíma horfi menn hins vegar aðgerðarlausir og orðlausir upp á álrisann Alcan ausa fjármagni til að hafa áhrif á lýðræðislega kosningu í Hafnarfirði! Þetta er hárrétt ábending hjá Gesti Svavarssyni. Sannast sagna finnst mér merkilegt að fjölmiðlar skuli þegja - nema DV. Ég hefði haldið að fjölmiðlar sýndu þessu áhuga - ég leyfi mér að fullyrða að fyrir þrjátíu árum hefði þjóðfélagið logað stafna á milli vegna þessarar frekju og yfirgangs álrisans. Eða skyldi Þjóðviljinn sálugi ekki haft eitthvað við þetta að athuga? ...Hér að neðan er svo bókun kröftugs oddvita VG í bæjarstjórn Hafnarfjarðar - hinnar sömu og ritar grein á síðu mína í dag í Frjálsum pennum - Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Í bókuninni fjallar ...13. Mars 2007
KRAFA HAFNFIRÐINGS: ALCAN LÁTI OKKUR Í FRIÐI !
Gestur Svavarsson skrifar í dag grein í Morgunpóst VG, sem verður að fá umræðu í þjóðfélaginu. Greinin nefnist Svört tíðindi í sögu lýðræðis. Í greininni vekur Gestur athygli á því að stjórnmálamenn séu uppteknir af því að setja stjórnmálaflokkum skorður um leyfilegan fjárhagsstuðning fyrirtækja. Ég tek undir þá hugsun sem fram kemur hjá Gesti að lýðræðið eigi að vera fjármagninu yfirsterkara og að ákvarðanir í samfélaginu megi aldrei ganga kaupum og sölum. En hvað gerist nú? Gestur Svavarsson segir: "Sá sögulegi atburður hefur nefnilega orðið á Íslandi, sennilega í fyrsta sinn, að ...10. Mars 2007
VILJUM VIÐ STJÓRNARSKRÁ SEM ENGINN SKILUR?
Hópar lögfræðinga liggja nú yfir stjórnarskrártexta þeirra Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins og Jóns Sigurðssonar, formanns Framsóknarflokksins. Sérfræðingar hagsmunasamtaka gera slíkt hið sama. Það liggur við að maður hafi séð Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóra LÍÚ klóra sér í höfðinu í útvarpsfréttum í gær þegar hann sagði að þar á bæ væru menn að reyna að átta sig á því hvort stjórnarskrárbreytingartillaga Geirs/Jóns væri til þess fallin að styrkja kvótakerfið eða veikja. Þetta þarf engum að koma á óvart. Bæði er... 7. Mars 2007
FRAMSÓKN OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR EINKAVÆÐA ENN
...Ljóst er að nýr eigandi gæti verið sterkur fjárfestir eða fyrirtæki hvar sem er á hinu Evrópska efnahagssvæði, þess vegna fyrirtæki í orkubransanum. Hvað með Norsk Hydro? Væri það ekki tilvalið, eða hvað? Eftirfarandi spurningar vakna: 1) Er það réttlætanlegt að ríkisstjórn taki umdeilda ákvörðun sem þessa í blálokin á kjörtímabili sínu?
2) Hvernig skýrir Framsóknarflokkurinn nýlegar yfirlýsingar um að ekki standi til að einkavæða orkugeirann?
3) Hvers vegna er haldið út á þessa braut þegar hver skýrslan á fætur annarri sýnir hve slæmt það hefur reynst skattborgurum og neytendum að einkavæða...
4. Mars 2007
FLOTT HALLA !
Ég skal játa að þegar Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður og knattspyrnukona með meiru, fékk aðeins örfá atkvæði í nýlegu formannskjöri til Knattspyrnusambands Íslands fyrir skömmu þá kom það mér á óvart og olli mér vonbrigðum, ekki hennar vegna heldur vegna KSÍ, sem mér fannst vera að fara á mis við tækifæri til þess að sækja inn í nýjar lendur með þessari kraftmiklu konu. Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir meðframbjóðendum Höllu Gunnarsdóttur. Þegar ég svo horfði á Höllu í Kastljósþættti Evu Maríu í kvöld fann ég að hún var þrátt fyrir allt sigurvegari þessara kosninga. Bæði breytti hún einhverju með...1. Mars 2007
AUGLÝSIR EFTIR UMRÆÐU UM MENNINGARPÓLITÍK

Í gær birtist í Blaðinu mjög athyglisvert viðtal Kolbrúnar Bergþórsdóttur við Ólaf Kvaran, fráfarandi forstöðumann Listasafns Íslands. Víða er komið við í viðtalinu og er Ólafur m.a. spurður hvort hann telji það heppilega þróun að einkafyrirtæki styrki Listasafnið en sem kunnugt er hefur ríkisstjórnin skorið niður við ýmsar ríkisstofnanir á sama tíma og þeim hefur verið gert að leita á náðir markaðarins um fjárframlög..."Það er að sjálfsögðu alltaf pólitísk spurning hvað ríkisvaldið á að vera sterkt í þessari uppbyggingu eða hvort á að láta hana alfarið í hendurnar á hinum frjálsa markaði sem stofnanir eins og Listasafnið verða þá háðar. Af einhverjum ástæðum hefur ekki orðið pólitísk umræða í samfélaginu um þessa stöðu menningarstofnana og þá um leið rétt fólks til menningar sem hluta af eðlilegum lífsgæðum. Í menningarumræðu þarf pólitíska stefnumörkun."...
28. Febrúar 2007
MORGUNSTUND GEFUR GULL Í MUND

Í gærmorgun gerði
27. Febrúar 2007
SKIPTIR MANNELDISSTEFNA STJÓRNVÖLD ENGU MÁLI?

...Nokkrir þingmenn stjórnarmeirihlutans sögðu að ráðrúm væri til að endurskoða málið því breytingin á vörugjöldum og virðisaukaskatti kæmi ekki til framkvæmda fyrr en 1. mars. Nú er sá dagur að renna upp. Ég skrifaði pistil um þetta málefni hér á síðuna fyrir fáeinum dögum þar sem ég hvatti til umræðu um þetta málefni. Vonaðist ég til að fram færi umræða í þjóðfélaginu í tæka tíð til að afstýra slysi. Engin sjáanleg viðbrögð urðu. Það eru vonbrigði. Í dag er gosmálið fyrsta mál á dagskrá Alþingis.
Athyglisvert verður að fylgjast með afstöðu þingmanna og þá einnig fjölmiðla. Getur það verið að öllum sé sama þótt löggjafinn stýri óhollustunni niður í æsku landsins...?
22. Febrúar 2007
TILRÆÐI VIÐ TJÁNINGARFRELSIÐ
Bændasamtökin tóku af skarið og úthýstu klámbisnismönnum, sem ætluðu að koma til ráðstefnuhalds hingað til lands til að leggja á ráðin um hvernig efla megi klámiðnaðinn í heiminum. Viðbrögð þjóðfélagsins voru sterk og afgerandi. Reykjavíkurborg andmælti, Alþingi andmælti og Bændasamtökin tóku síðan af skarið og lokuðu dyrum Bændahallarinnar/Hótel Sögu. Þessir aðilar eiga allir lof skilið.
Ekki mun þetta þó hafa gerst af sjálfu sér. Nokkrar kraftmiklar konur tóku frumkvæðið strax og fréttir bárust af fyrirhuguðu ráðstefnuhaldi og létu þá þegar frá sér heyra.
Nú hefur komið í ljós að þessar konur hafa orðið fyrir ofsóknum og níðskrifum vegna framgöngu sinnar í þessu máli, einkum á netinu. Þessi skrif hafa tekið á sig mjög ljótar myndir. Þannig mun ...
Ekki mun þetta þó hafa gerst af sjálfu sér. Nokkrar kraftmiklar konur tóku frumkvæðið strax og fréttir bárust af fyrirhuguðu ráðstefnuhaldi og létu þá þegar frá sér heyra.
Nú hefur komið í ljós að þessar konur hafa orðið fyrir ofsóknum og níðskrifum vegna framgöngu sinnar í þessu máli, einkum á netinu. Þessi skrif hafa tekið á sig mjög ljótar myndir. Þannig mun ...
21. Febrúar 2007
LÝÐHEILSUSTÖÐ HUNSUÐ - ALÞINGI VERÐSTÝRIR ÓHOLLUSTUNNI OFANÍ BÖRNIN !

...Þannig er um að ræða talsverða lækkun á matvöruverði. Mismikla þó. Hvar skyldi lækkunin vera mest? Lækkunin er mest á gosdrykkjum og sykruðum drykkjum! ... Þegar lög um þessar breytingar voru sett í haust fékk Alþingi bréf frá Lýðheilsustöð þar sem þess var eindregið óskað að gos- og sykurdrykkir yrðu ekki lækkaðir...Á fundi Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis nú í vikunni tók ég málið upp að nýju og spurðist fyrir um framgang þess. Þau svör fengust að ekki hafi verið fallist á að verða við óskum Lýðheilsustöðvar. Nú spyr ég...Vega þyngra peningahagsmunir gosdrykkjaframleiðenda en ...
20. Febrúar 2007
HÁSKÓLASTÖÐUR TIL SÖLU?

...Þetta er ekki fyrsta háskólastaðan sem fyrirtæki kaupir við Háskóla Íslands. Þetta er einfaldlega sú nýjasta og í samræmi við stefnu háskólans. Með þessari stefnu er háskólinn smám saman að breyta um eðli, hættir að vera sjálfstæð opinber stofnun en verður í síauknum mæli háð fjármagnseigendum, hinum nýju valdhöfum Íslands, sem á sviði háskólamenntunar sem á öðrum sviðum samfélagsins, móta stefnu og áherslur. Ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en að LOGOS sé ágætt og heiðvirt fyrirtæki. Það hlýtur að verða fyrirtækinu álitsauki að "eiga" kennara við Háskóla Íslands. Athygli vekur hins vegar að forseti lagadeildar HÍ skuli snúa dæminu við: Það hljóti að vera lagadeild Háskóla Íslands til álitsauka að Logos skuli láta svo lítið að stíga þetta skref. Spurningin er svo þessi: Hvar dregur Háskóli Íslands línurnar? Væru allar lögmannstofur landsins...
17. Febrúar 2007
HVER ER MUNURINN Á VÍTISENGLI OG KLÁMFRAMLEIÐANDA?
Fyrir nokkru stöðvaði lögreglan hóp norrænna Vítisengla sem hingað voru komnir til að nema ný lönd fyrir glæpastarfsemi sína. Við komuna til landsins var þeim vísað brott. Þetta mæltist almennt mjög vel fyrir. Almannarómur var á þá lund að fólk í illum erindagjörðum ætti ekki að vera velkomið til landsins...13. Febrúar 2007
STÓRFUNDUR Í MOSFELLSBÆ

Sýnist sitt hverjum en hörðust gagnrýni hefur komið frá svokölluðum Varmársamtökum sem kenna baráttu sína við Varmána, sem rennur um þetta svæði. ...Fundurinn var heitur enda mörgum þetta mikið tilfinningamál.
Bæjaryfirvöld eiga hrós skilið fyrir að bjóða fulltrúum Varmársamtakanna að hafa formlega kynningu á sinni afstöðu nánast til jafns við bæjarstjórnina. Hún hefur reyndar staðfastlega haldið því fram að kynning og samráð hafi átt sér stað um skipulag svæðisins enda hafi það tekið breytingum í tímans rás einmitt vegna gagnrýni sem fram hefur komið. Engan veginn nóg hafa Varmársamtökin sagt og á fundi sem þau boðuðu til sl. laugardag var haft á orði að deilan snerist um samskipti og jafnvel mannasiði. Sami maður og lét þau orð falla á laugardag sagði...
12. Febrúar 2007
ÞÖRF Á BJÖRGUNARLEIÐANGRI!
Þegar rjúpnaskytta týnist eða ferðalangur – þá er kallað út fjölmennt björgunarlið og ekkert til sparað þar til hinn týndi er fundinn og tryggt að hann fái bestu aðhlynningu sem völ er á. Kunningi minn einn spurði hvernig stæði á því að hið sama væri ekki látið gilda um þá sem yrðu að þola vosbúð af þeim toga sem við höfum fengið fregnir af úr Byrginu og Breiðuvík. Ekki virðist leika vafi á að á báðum stöðum hafi skelfilegir atburðir átt sér stað þótt áhöld kunni að vera á um sitthvað sem fram hefur komið í fjölmiðlum. En það er önnur saga. Það sem máli skiptir er að ósjálfbjarga fólk hefur þurft að búa við ofbeldi án þess að samfélagið hlutaðist til...5. Febrúar 2007
SAMGÖNGURÁÐHERRA Á AÐ ÞJÓNA ÞJÓÐINNI

...Þá er komið að Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra. Hverra hagsmuna telur hans sig eiga að gæta? Hagsmuna þjóðarinnar eða fjárfesta?
Augljóst er að hann horfir frekar til fjárfestanna því í ljós hefur komið að hann hefur þegar óskað eftir því við Vegagerðina að hún hefji viðræður við Norðurveg ehf um könnun á umhverfisþáttum og rekstrarkostnaði við upphækkaðan Kjalveg! En það er ekki nóg með að samgönguráðherra gangi erinda fyrirtækisins á kostnað þjóðarhagsmuna. Hann fer út yfir öll leyfileg lýðræðismörk með því að ljá þessu yfirleitt máls á síðustu metrum kjörtímabilsins. Færa má fyrir því gild rök að ...
4. Febrúar 2007
HLÍF ÓSKAÐ TIL HAMINGJU Á 100 ÁRA AFMÆLI

...Undir þessi orð skal svo sannarlega tekið jafnframt því sem þessu merka félagi eru færðar árnaðaróskir á aldarafmælinu. Afmælið ætti að verða okkur tilefni til að minnast alls þess fólks sem á tuttugustu öldinni lagði grunn að því velferðarkerfi sem við búum við í dag. Þar gegndi verkalýðshreyfingin sínu mikla hlutverki. Aldarafmæli Hlífar ætti líka að verða okkur tilefni til að leiða hugann að því að verkalýðsbarátta snýst ekki aðeins um krónur og aura. Hún snýst um mannlega reisn, að enginn maður þurfi að bogna vegna félagslegrar stöðu sinnar; að allt fólk geti borið höfuðið hátt í samskiptum við annað fólk, "hver sem í hlut á og við hvern sem er skipt...”
28. Janúar 2007
AÐ HAFA VIÐURVÆRI AF GLÆPUM

...Nýjasta dæmið um útrás landans er þó af allt öðrum toga. Sú útrás snýr að því að nýta sér spilafíknina á alþjóðavísu. Hér á ég við 28,10 % eignarhlut Straums-Burðaráss í Betsson netspilavítinu en vel að merkja þá eru þessir íslensku fjárfestar langstærstu eigendur spilabúllunnar! Þetta kemur mér upp í hugann nú þegar ég sit við norskan sjónvarpsskjá á ferð minni til Noregs. Í auglýsingu sem birtist á milli dagskrárliða er fólk hvatt til að heimsækja heimasíður spilavítisins. Þegar það er gert geta menn valið um ein átta tungumál, þar á meðal ástkæra ylhýra málið. Þegar komið er inn á íslensku síðuna blasir nú aldeilis við gósenland. Þar erum við frædd um að 6 milljón manns taki þátt í pókerspilinu enda sé þetta “frábær skemmtun”. Þarna erum við hvött til að setjast við rúlettuborð með þessum orðum. “Þú leggur undir við látum þig hafa peningana!” Hvílkt kostaboð! Spilavítið lýsir sér nánast sem góðgerðastofnun sem lætur fé af hendi rakna. Auðvitað er þessu þveröfugt farið. Hér er um að ræða frumstæða glæpastarfsemi sem gerir út á...
22. Janúar 2007
UM ORÐIN OG GILDI UMRÆÐUNNAR
...Ekki man ég alveg hvað 20. Janúar 2007
HVORT ER MIKILVÆGARA PENINGAR EÐA FÓLK?
Birtist í DV 19.01.07
...Síðan er hitt: Hér eftir verður að gera þá kröfu að þá aðeins verði fjármunum veitt til meðferðaraðila eftir að áður hefur farið fram ítarleg rannsókn á hæfi þeirra og fagmennsku til að sinna slíkum verkefnum. Við megum ekki gleyma því að um er að ræða meðferð fyrir sársjúkt fólk, einstaklinga sem eru í mikilli neyð, háðir vímuefnum og oft án húsnæðis. Þetta fólk er varnarlaust gagnvart umhverfi sínu. Það er ábyrgðarhluti hvernig að því er staðið að fela það í hendur stofnunum eða samtökum.
Enda þótt kristilegir söfnuðir á borð við Samhjálp og aðra ámóta aðila hafi unnið þarft starf þá er kominn tími til að spyrja hvort það sé rétt að fela trúarsöfnuðum að annast á vegum hins opinbera meðferð vímuefnasjúklinga. Finnst okkur rétt að...
...Síðan er hitt: Hér eftir verður að gera þá kröfu að þá aðeins verði fjármunum veitt til meðferðaraðila eftir að áður hefur farið fram ítarleg rannsókn á hæfi þeirra og fagmennsku til að sinna slíkum verkefnum. Við megum ekki gleyma því að um er að ræða meðferð fyrir sársjúkt fólk, einstaklinga sem eru í mikilli neyð, háðir vímuefnum og oft án húsnæðis. Þetta fólk er varnarlaust gagnvart umhverfi sínu. Það er ábyrgðarhluti hvernig að því er staðið að fela það í hendur stofnunum eða samtökum.
Enda þótt kristilegir söfnuðir á borð við Samhjálp og aðra ámóta aðila hafi unnið þarft starf þá er kominn tími til að spyrja hvort það sé rétt að fela trúarsöfnuðum að annast á vegum hins opinbera meðferð vímuefnasjúklinga. Finnst okkur rétt að...
19. Janúar 2007
ROFIN SÁTT UM RÚV ?
...Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur leitað eftir málamiðlun með tvennum hætti. Í fyrsta lagi hefur það verið boðið að gerð yrði lágmarksbreyting á lagarammanum um Ríkisútvarpið en hinu frestað sem grundvallarágreiningur er um. Í öðru lagi hefur verið sett fram það tilboð að greitt yrði fyrir því að frumvarpið kæmi skjótt til afgreiðslu á þingi en lögin öðluðust hins vegar ekki gildi fyrr en að afloknum kosningum. Þar með gæfist nýrri ríkisstjórn og nýjum stjórnarmeirihluta ráðrúm til að endurskoða málið sem þá kæmi einnig til umræðu í kosningabaráttunni. Þessi ákvörðun fengi þannig lýðræðislegt vægi. Ríkisstjórnin hefur til þessa slegið á allar tilraunir til samkomulags og sátta og hamrar á því að... 16. Janúar 2007
FYLGIST MEÐ AFSTÖÐU ALÞINGISMANNA TIL RÚV !
Birtist í Morgunblaðinu 15.01.07
...Staðhæfing um að hlutafélagavæðing Ríkisútvarpsins sé skref til framfara er loddaraskapur af verstu gerð. Þetta er aðferð til að ræna fólk réttindum, koma almannastofnun í skjól undan eðlilegu aðhaldi og draga úr lýðræðislegri aðkomu. Hlutafélagavæðingin byggist á botnlausri trú á markaðshyggju og ágæti forstjóravalds....
...Staðhæfing um að hlutafélagavæðing Ríkisútvarpsins sé skref til framfara er loddaraskapur af verstu gerð. Þetta er aðferð til að ræna fólk réttindum, koma almannastofnun í skjól undan eðlilegu aðhaldi og draga úr lýðræðislegri aðkomu. Hlutafélagavæðingin byggist á botnlausri trú á markaðshyggju og ágæti forstjóravalds....
15. Janúar 2007
ER ÞETTA ÞAÐ SEM KOMA SKAL: ÞRÖNG PÓLITÍSK HAGSMUNAGÆSLA ?
...Ég endurtek að Páll Magnússon má að sjálfsögðu tjá sig um sínar skoðanir. En til hans eru gerðar kröfur. Mér þykir hann ekki rísa undir lágmarkskröfum sem gera þarf til útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins með Morgunblaðsgrein sinni í dag. Er þetta það sem koma skal í málflutningi frá RÚV o.h.f. ? Viljum við að þar ráði ríkjum harðpólitískur útvarpsstjóri ríkisstjórnarinnar? Við skulum ekki gleyma því að ein megingagnrýnin á frumvarp ríkisstjórnarinnar er sú að yfir stofnunina er ætlunin að setja stjórn sem ríkisstjórnarmeirihlutinn kýs. Þessi stjórn skal kosin árlega þannig að aldrei verði langt í taumnum. Hin pólitíska stjórn ræður síðan (og rekur eftir atvikum) útvarpsstjórann, einvaldinn innan veggja RÚV. Er líklegt að þetta fyrirkomulag stuðli að yfirvegaðri og málefnalegri umfjöllun fréttamanna og dagskrárgerðarmanna RÚV o.h.f.? Vildi útvarpsstjóri ef til vill sýna fordæmi með skrifum sínum...
11. Janúar 2007
MINNISBÓK KRISTÍNAR
... Þannig er ástæða til að mæla með "Minnisbók" Kristínar Halldórsdóttur, fyrrverandi alþingiskonu og framkvæmdastjóra VG en þessa "bók" er að finna á vefsíðu hennar: www.kristin.is. Í nýlegum pistlum fjallar Kristín Halldórsdóttir um nýjan bæjarstjóra á Akureyri, fyrirhugað álver í Helguvík og komandi alþingiskosningar. Þar veltir hún vöngum yfir því hvort eldri borgarar svo og Framtíðarlandið komi til með að bjóða fram í kosningunum í vor. Þar segir m.a.:... Þessa dagana og væntanlega næstu vikur er áhugaverðast að sjá hvernig málin þróast hjá eldri borgurum og ekki síður hjá Framtíðarlandinu. Talsverður áhugi virðist á framboði hjá hvorum tveggja hópum, en líka mikil andstaða og alls óvíst hvað verður ofan á. Minni spenna er þó í kringum ...11. Janúar 2007
ÆTLAR FRAMSÓKN VIRKILEGA AÐ SVÍKJA RÍKISÚTVARPIÐ?
Birtist í Blaðinu 10.01.07.
Í Blaðinu sl. fimmtudag er fróðleg frétt um frumvarp ríkisstjórnarinnar um háeffun Ríkisútvarpsins undir fyrirsögninni Málið í sama hnút og áður. Rætt er við formann menntamálanefndar Alþingis Sigurð Kára Kristjánsson, hinn geðþekka og galvaska frjálshyggjumann, sem áður flutti frumvarp um að ganga enn lengra og hreint til verks og selja RÚV þegar í stað. Sigurður Kári er hinn ánægðasti með gang mála: „Ég er bara hress. Málið er þó í sama hnút og áður fyrr og menn eru ósammála um rekstrarformið.“ Hér talar formaður menntamálanefndar Alþingis Íslendinga. Hann er hinn hressasti þótt málið sé í bullandi ágreiningi. Einhvern tíma þótti skipta máli að...
Í Blaðinu sl. fimmtudag er fróðleg frétt um frumvarp ríkisstjórnarinnar um háeffun Ríkisútvarpsins undir fyrirsögninni Málið í sama hnút og áður. Rætt er við formann menntamálanefndar Alþingis Sigurð Kára Kristjánsson, hinn geðþekka og galvaska frjálshyggjumann, sem áður flutti frumvarp um að ganga enn lengra og hreint til verks og selja RÚV þegar í stað. Sigurður Kári er hinn ánægðasti með gang mála: „Ég er bara hress. Málið er þó í sama hnút og áður fyrr og menn eru ósammála um rekstrarformið.“ Hér talar formaður menntamálanefndar Alþingis Íslendinga. Hann er hinn hressasti þótt málið sé í bullandi ágreiningi. Einhvern tíma þótti skipta máli að...
6. Janúar 2007
FRÁBÆR STUND Í BOÐI UNGRA VINSTRI GRÆNNA

...Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður UVG, kynnti síðan til sögunnar tvo flokksfélaga, annan sem fékk notið þeirrar náttúrudýrðar sem nú er komin undir lón og hinn sem mun aldrei fá hennar notið. Þetta voru þau Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og
3. Janúar 2007
ATHYGLISVERÐ UMRÆÐA UM ÞJÓÐFÉLAG, STJÓRNMÁL OG FJÖLMIÐLUN
Nýlega hafa birst hér á síðunni athyglisverðar greinar um fjölmiðla og umfjöllun þeirra um álitamál samtímans. Jón Bjarnason veltir fyrir sér umfjöllun Ríkisútvarpsins um hlutafélagavæðingu opinberrar starfsemi, háeffun, og vísar í starfsemi sem nú er að ganga í gegnum þetta ferli: Flugumferðarstjórnina í landinu og rekstur flugvalla landsins og markaðsvæðingu matvælarannsókna og stofnun hlutafélagsins Matís.
Ólafur B. Andrésson skrifar síðan mjög athyglisverða grein um áhrifamátt fjölmiðla, Fjórða valdsins, í íslensku samfélagi. Ólafur spyr...
Ólafur B. Andrésson skrifar síðan mjög athyglisverða grein um áhrifamátt fjölmiðla, Fjórða valdsins, í íslensku samfélagi. Ólafur spyr...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson
Þorleifur Gunnlaugsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...













