Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

30. September 2006

Í DAG FÓR HERINN – EN EKKI ARFLEIFÐIN

Bandaríski herinn er horfinn af landi brott, góðu heilli. Sögu hersetunnar á hins vegar eftir að gera skil. Það verður ekki gert fyrr en öll kurl eru komin til grafar... Það er greinilegt að Þór Whitehead sagnfræðingur hefur strokið mörgum manninum öfugt í Kastljósþætti hinn 21. september síðastliðinn. Ekki leið langur tími þar til ég hafði fengið senda grein frá ... Rúnari Sveinbjörnssyni. Rúnar er góður félagi í vinstripólitíkinni en hann á jafnframt sterk fjölskyldutengsl til verkalýðsbaráttu á Kaldastríðsárunum og þykist ég vita að honum renni blóðið til skyldunnar þegar dylgjað er um heiðvirða íslenska verkamenn...Þá hvet ég fólk mjög eindregið til þess að lesa grein Kjartans Ólafssonar í Morgunblaðinu í dag. Ég tek mér það bessaleyfi að birta grein hans hér að neðan. Ég birti einnig mjög góða og upplýsandi grein eftir Árna Björnsson, sem birtist í Morgunblaðinu hinn 6. júlí. Tilvísun mín í skrif þessara ágætu manna geri ég að kveðju minni til bandarískrar hersetu á Íslandi. Eitt er víst og verður hverjum og einum augljóst við...

26. September 2006

ÍTALÍUÞANKAR

...Ítalíumegin landamæranna á Rívierunni – aðeins upp til fjalla - er  þorpið Dolceacqua. Þangað fórum við á laugardagskvöldið. Þar sáum við sýningu, ítalska ljósmyndarans Eugenio Andrighetto á ljósmyndum sem hann tók í Íslandsferð sinni sumarið 2000. Myndirnar voru í einu orði sagt, stórkostlegar og fékk ljósmyndarinn lófaklapp að sýningu lokinni. Ekki síst þótti fólki mikið til fossamynda Eugenios Andrighettos koma. Þar í bland var fossaröðin sem drekkt verður í Hálslóni við Kárahnjúka. Um það var ekki rætt á sýningunni í Dolceacqua. Ég held að í salnum þar sem sýningin fór fram hefði enginn trúað því að til stæði að eyðileggja þessa fegurð. Í lesnum texta Eugenios Andrighettos með myndunum, sagði að á Íslandi væri menntaðasta og gjörvulegasta þjóð í heimi! Eugenio var ekkert að draga af sér þegar hann lýsti aðdáun sinni á Íslandi og Íslendingum. Sennilega hafði hann ekki ...

24. September 2006

HORFT TIL KÁRAHNJÚKA AF HLAÐINU Á HÓLUM Í HJALTADAL

„Ég er hrædd um að þau sem ganga um Kárahnjúkasvæðið í nánustu framtíð og lesa á skilti , hér rann Kringilsá, hér féll Tröllafoss, hér var Hafrahvammagljúfur, blessuð sé minning þeirra, muni ekki líta á verkið sem sjálfsbjargarviðleitni rísandi þjóðar heldur grátlegan hroka velmegunarríkis sem kunni sér ekki magamál.“ Þetta eru niðurlagsorðin í áhrifaríkri útvarpsmessu frá Laugarneskirkju í dag þar sem séra Hildur Eir Bolladóttir prédikaði. ... Af hlaðinu á Hólum í Hjaltadal veltir Hildur Eir fyrir sér muninum á þörf og græðgi. Hún vitnar til þess þegar  verið var að blessa Auðunnarstofu hina nýju, tilgátuhús, sem reist var til að heiðurs Auðunnarstofu hinni fornu, sem byggð var á 14. öld, en rifin í miklum harðindum um 1810 til að ...

20. September 2006

ÁHUGAVERÐ RÁÐSTEFNA UM SÁTTAFERLI Á ÁTAKASVÆÐUM

Föstudaginn 22. september verður haldin ráðstefna í Hafnarfjarðarkirkju um "sáttaferli á átakasvæðum heimsins með erlendum sáttasemjurum í fremstu röð". Í fréttatilkynningu segir á meðal annars um fyrirlesara og viðfangsefni  “Dr. Rodney Petersen forstöðumaður Guðfræðistofnunarinnar í Boston, Boston theological Institute og dr. Raymond Helmick S. J., Jesúítaprestur og alþjóðlegur sáttasemjari til fjölda ára hafa þróað og beitt árangursríkum aðferðum til sáttaumleitana á átakasvæðum m.a. á Balkanskaga, Norður-Írlandi og í Landinu helga.”...Fyrir mitt leyti þykir mér þetta vera afar áhugavert viðfangsefni og kemur þá fyrst upp í hugann sáttaferlið í Suður-Afríku sem Desmond Tutu stóð í fararbroddi fyrir. Með sáttaferlinu tókst Suður-Afríkumönnum að rjúfa vítahring hatursins sem einkennir helstu samfélög á helstu átakasvæðum heimsins...

13. September 2006

GÓÐUR BOÐSKAPUR FRÁ BESSASTÖÐUM


...Ólafur Ragnar Grímsson sagði það vera miður hversu mörg samfélög heimsins væru byggð á vantrausti. Hryðjuverkaöfl mættu ekki ná þannig tökum á hugsunarhætti og hegðun fólks að samfélaginu væri gjörbreytt og umturnað.: "Ef að það gerðist, þá væru hryðjuverkaöflin búin að ná þeim árangri að þau gætu svo sannarlega hrósað sigri. Og framlag Íslands, í þessum nýja heimi eftir 11. september, er kannski fyrst og fremst það að sýna í verki að þrátt fyrir allt þá sé hægt að vera með þjóðfélag sem er opið og öruggt og frjálst og lýðræðislegt, án þess að reisa varnarmúra tortryggni og ótta. Við séum samfélag sem byggir á því að treysta öllum, þar til það kemur í ljós að það er ekki hægt að treysta þeim. "
Undir þetta skal tekið. Einu má bæta við. Það eru því miður ekki aðeins ...

12. September 2006

FRAMSÓKNARFLOKKURINN OG "FYRIRTÆKI ÚTI Í BÆ"

...við skyldum ekki gleyma því að þessar framkvæmdir eru á vegum fyrirtækja í almannaeign: Landsvirkjun er jú í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar og Akureyrar og allar framkvæmdir á hennar vegum eru á ábyrgð skattborgarans!!!  Þetta er öllum augljóst – nema náttúrlega Framsókn. Birkir Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gegnir embætti formanns iðnaðarnefndar nú um stundir. Hann kom fram í fréttum og lýsti furðu á því að alþingismenn vildu upp á dekk gagnvart fyrirtæki úti í bæ með því að krefjast þess að það opni bókhald sitt gagnvart almenningi. Stundarkorn velti ég því fyrir mér hvort væri fyrirtækið úti í bæ, Alcoa eða Landsvirkjun. Ég komst að sömu niðurstöðu og klippari Sjónvarps, sem myndskreytti tilvísun Birkis til fyrirtækisins úti í bæ með merki Landsvirkjunar. Látum vera þótt þingmanni Framsóknarflokksins finnist það vera...

11. September 2006

EKKERT LEYNIMAKK – ÖLL SPILIN Á BORÐIÐ !

Á framhaldsfundi iðnaðarnefndar í dag kröfðust fulltrúar Landsvirkjunar þess, að því aðeins kynntu þeir nýtt arðsemismat Kárahnjúkavirkjunar fyrir þingnefndinni að þingmenn hétu því að þegja um upplýsingarnar ! Með þessu móti er greinilega verið að reyna að múlbinda alþingismenn og koma í veg fyrir að þeir geti talað opið um þessi mál. Ég sagði að þetta væri út í hött, það væri komið nóg af leynimakki, bæði þing og þjóð ættu kröfu á því að öll spil yrðu lögð á borðið. Fulltrúar Landsvirkjunar létu gagnrýni mína sem vind um eyru þjóta og fengu stuðning formanns iðnaðarnefndar, Birkis Jónssonar, í þessu efni. Ég sá mér þá ekki annað fært en víkja af fundinum og sagðist ekki myndu taka þátt í yfirhylmingu gagnvart þjóðinni því auðvitað er fyrst og fremst verið að halda upplýsingum leyndum gagnvart henni. Að mínu mati er leynimakkið í tengslum við þessar framkvæmdir beinlínis orðið þjóðhættulegt. Það er gjörsamlega fráleitt og fullkomlega óásættanlegt að ekki geti...

9. September 2006

UPPLÝSINGAFULLTRÚI HERSINS UPPLÝSIR - MEIRA EN RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS GERIR


Eftir að NFS fréttastöðin gekkst í málið hefur upplýsingafulltrúi bandaríska hersins hér á landi  upplýst að búið sé að loka hinum herstjórnarlega þætti loftferðakerfis hersins hér á landi. Þetta þýðir að þótt ratsjárstöðvarnar séu enn til staðar er ekki lengur tekið við merkjasendingum þaðan. Enn er tekið á móti merkjasendingum til íslensku flugumferðarstjórnarinnar – sendingum sem þjóna almennri flugumferð. En hversu lengi? Íslensk stjórnvöld verða að svara því hvort um þetta hafi verið gerðir samningar og til hve langs tíma. Slíkur hefur rolugangurinn verið, að hreinlega öllu er trúandi upp á ríkisstjórnina í þessu efni. Ár eftir ár ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta