Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

28. Apríl 2006

FORMAÐUR VG KVITTAR FYRIR BOÐ Á RÁÐSTEFNU

Í Morgunblaðinu í dag gerir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, að umtalsefni ráðstefnu breska vikuritsins "The Economist", sem verður á Hótel Nordica 15. maí í boði Alcoa og fleiri aðila. Gerir hann að sérstöku umfjöllunarefni kynningarbækling ráðstefnunnar. Þennan kynningarbækling er ekki hægt að nálgast á heimasíðu ráðstefnunnar en ég geri hann aðgengilegan hér á heimasíðu minni. Í grein sinni segir Steingrímur m.a. : "Nú er það ekki svo að maður kippi sér upp við ráðstefnuboð og ekki heldur þó ræðumannahjörðin sé einlit og útlit fyrir að fátt annað komist að en níðþröng sjónarmið ráðstefnuhaldarans eða þess sem borgar brúsann. Svo er vissulega í þessu tilfelli. Ekkert nema "stofuhreinir" stuðningsmenn Kárahnjúkavirkjunar komast á pall ..." Ég læt ...

26. Apríl 2006

NÁ VARNAÐARORÐ ÞINGMANNA FRAMSÓKNARFLOKKSINS TIL RÚV?

Engin fjölmiðlalög nema sátt verði milli flokkanna. Þetta er haft eftir þingmönnum Framsóknarflokksins í fjölmiðlum í dag. Þingmennirnir eru mjög samhljóma í yfirlýsingum sínum hvað þetta snertir. Magnús Stefánsson starfandi þingflokksformaður talar skýrt á forsíðu Fréttablaðsins:  þetta frumvarp verður ekki að lögum nema pólitísk samstaða sé um málið. Sú þverpólitíska samstaða þarf að ná alveg í gegn. Málið verður ekki klárað öðruvísi í vor." Og Ísólfur Gylfi Pálmason tekur í sama streng: " Við þurfum að velta þessum hlutum fyrir okkur eins vel og mögulegt er og alls ekki ana að neinu." Gott og vel. Ég er fyrir mitt leyti sammála því að um fjölmiðlalög þurfi að ríkja breið samstaða. En gildir hið sama ekki um Ríkisútvarpið? Þarf ekki að...

23. Apríl 2006

Á RÍKISÚTVARPIÐ AÐ VERA ÞJÓNUSTUSTOFNUN EÐA FJÁRFESTINGAFYRIRTÆKI?

Birtist í Blaðinu 22.04.06.
... Er það inn í þennan heim sem Ríkisútvarpinu er stefnt? Ef ekki, þá vil ég fá að vita hvað það er sem Ríkisútvarpið getur ekki gert undir núverandi löggjöf en þarf nú bráðnauðsynlega að fá svigrúm til að gera? Er nálægðin við hið pólitíska vald vandamálið? Varla, því með núverandi löggjöf er á mótsagnakenndan hátt gert tvennt í senn, útvarpsstjóra veitt alræðisvald um mannaráðningar og framkvæmd dagskrár og hert á hinum pólitísku tengslum. Og ef pólitísku tengslin vefajst fyrir mönnum, hvers vegna ekki draga úr þeim? Ef Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Árni Matthiesen, fjármálaráherra, eru vandamálið, að eigin mati, hvers vegna halda þau sig þá ekki til hlés...?

21. Apríl 2006

RÍKISÚTVARP ER EKKI SAMA OG RÚV HF

Birtist í Fréttablaðinu 20.04.06.
...Stjórnendahyggja af þessu tagi virðist hins vegar eiga nokkuð upp á pallborðið um þessar mundir: Ofurtrú á hinum sterka stjórnanda sem skákar liðsmönnum sínum til í anda skilvirkni og hagkvæmni. Ég hef meiri trú á einstaklingnum en svo að ég sé tilbúinn að gleypa slíka hugmyndafræði. Hefur mér enda sýnst kraftmestu stofnanirnar og fyrirtækin vera þau sem virkja sköpunarkraft hvers og eins en leggja ekki allt traust sitt á hinn alvitra ofurlaunaforstjóra. Þá vil ég minna á að um árabil hefur Ríkisútvarpið verið fjárhagslega svelt og er þar komin helsta skýringin á vandræðum stofnunarinnar...

20. Apríl 2006

ÞAÐ ER HÆGT AÐ LAGA RÍKISÚTVARPIIÐ ÁN HÁEFFSINS

Birtist í Morgunblaðinu 19.04.06.
...Í öðru lagi er Ríkisútvarpið svokölluð B-hlutastofnun og sem slík mjög sjálfráð um allar sínar gjörðir. Þegar Rás 2 var sett á laggirnar á sínum tíma gerðist það með þeim hætti að Andrés Björnsson, þáverandi útvarpsstjóri, skipaði þriggja manna nefnd til að skoða kosti í stöðunni og í kjölfarið undirbúa stofnun rásarinnar. Skömmu síðar var opnað fyrir Rás 2! Varla getur þetta talist þunglamalegt kerfi. Ég hef einnig velt því fyrir mér hvort Ríkisútvarpið og stjórnendur þess, hafi verið látnir njóta sannmælis í oft óvæginni gagnrýni í þeirra garð á undanförnum árum. Þar vísa ég í framfarir ...

19. Apríl 2006

ER SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ORÐINN ÞRÖNGSÝNNI?

Birtist í Morgunblaðinu 18.04.06.
...Aðeins þegar verðmæti dýrmætrar fiðlu kemur til álita má kenna lífsmark með forsvarsmönnum ...Skyldi það ekki verða þeim umhugsunarefni nú, að þeir alþingismenn sem mest hafa talað fyrir frumvarpi menntamálaráðherra eru sömu þingmennirnir og sjálfir hafa lagt fram lagafrumvarp um að leggja Ríkisútvarpið niður! Formaður menntamálanefndar Alþingis, Sigurður Kári Kristjánsson, sá hinn sami og hefur fengið það verkefni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að sannfæra þing og þjóð um að hagur Ríkisútvarpsins verði tryggður, hefur sjálfur, og það meira að segja nýlega, talað fyrir því að Ríkisútvarpið verði gert að hlutafélagi og það síðan selt. Er þetta traustvekjandi? Svari hver fyrir sig...

16. Apríl 2006

"BUSH BELONGS...

...bin Laden belongs – all, all belong. Gays, lesbians and so called straigths, all are loved, all are precious... Allir eiga samleið. Allir. Bush og bin Laden, samkynhneigðir og gagnkynhneigðir. Þetta er ein fjölskylda og í þessari fjölsyldu eiga að gilda lögmál fjölskyldunnar, þar sem hver leggur fram eftir getu og hver fær eftir þörfum. Það er suður-afríski biskupinn Desmond Tutu sem talar á heimsþingi Alkirkjuráðsins í Brasilíu í febrúar sl..  Á þessa leið skilaði Ævar Kjaratansson boðskap Tutus til íslenskra útvarpshlustenda. Á páskum og öðrum stórhátíðum sýnir Ríkisútvarpið gjarnan hvers það er megnugt. Ég stilli yfirleitt á...

14. Apríl 2006

DJÚPVITUR BOÐSKAPUR FRÁ REYNIVÖLLUM Í KJÓS

"Hvað er á bak við hina bandarísku hersetu í Keflavík undanfarna áratugi, hvað er á bak við herþotur og herþyrlur, kafbáta og herskip, hvað er á bak við einkennisbúninga og heiðursmerki, kaskeiti og radarstöðvar? Hvaða hugarfar og heimsmynd er það sem við Íslendingar erum að kveðja – sumir með söknuði, aðrir fagnandi – þegar þoturnar fjórar hverfa í átt til hnígandi sólar?" Þannig spyr séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós ... Í predikun sinni veltir hann síðan vöngum yfir þessari spurningu og öðrum áleitnum spurningum okkar samtíðar, setur þær í sögulegt, pólitískt og heimspekilegt samhengi, auk hins trúarlega. Presti sem predikar í nafni Þjóðkirkju er mikill vandi á höndum. Hann þarf að geta talað til hins trúaða manns en einnig til hins sem ekki er trúaður eða hefur efasemdir í brjósti. Séra Gunnar Kristjánsson rís undir þessu erfiða hlutverki... Séra Gunnar Kristjánsson var í hópi guðfræðinga sem höfðu sig mjög í frammi í friðarbaráttunni í byrjun níunda áratugar síðustu aldar. Hann var einn af gerendunum í sköpun nýrra tíma. Þá, sem nú...

12. Apríl 2006

100. TBL. FRÉTTABRÉFSINS

Það fréttabréf sem þið hafið nú fyrir framan ykkur er það hundraðasta í röðinni. Það hefur verið sent reglulega út allt frá því að ég stofnaði vefsíðu mína ogmundur.is og við lauslega athugun kemur í ljós að í fréttabréfinu hafa birst á níunda hundrað greinar eftir mig, um 150 greinar eftir aðra höfunda og hátt í 600 lesendabréf. Með því að skrá sig á póstlistann hér til vinstri er hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfinu.

8. Apríl 2006

GLEYMDI EINUM

Í gær fjallaði ég um helstu samstarfsmenn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, um breytingar á lögum um útvarpsrekstur í landinu. Þetta er frjálshyggjuvængur Sjálfstæðisflokksins ... Þessir samstarfsmenn menntamálaráðherra styðja frumvarp hennar þótt þeir vilji reyndar ganga skrefi lengra en ráðherra, láta ekki staðar numið við hlutafélagavæðingu heldur selja Ríkisútvarpið hið allra fyrsta. Þar skilja hins vegar leiðir með þessum mönnum og Páli Magnússyni, útvarpsstjóra. Hann er þó einn harðdrægasti stuðningsmaður menntamálaráðherra um að hlutafélagavæða RÚV. Auðvitað átti ég að heiðra Pál með...

7. Apríl 2006

ÞORGERÐUR OG FÉLAGAR SETJI FRUMVARP UM RÚV HF Á ÍS


...Hvernig væri að menntamálaráðherra svaraði þeim rökum sem Þorsteinn Pálsson, Birgir Guðmundsson og Össur Skarphéðinsson hafa sett fram á frumvarp hennar.
Sjálfur hef ég í ræðu og riti komið á framfæri gagnrýni á umrætt lagafrumvarp en fátt hefur hins vegar verið um svör frá aðstandendum frumvarpsins. Einfaldlega er staðhæft að Ríkisútvarpinu muni vegna betur sem hlutafélagi en sem ríkisstofnun.
Helstu málsvarar frumvarpsins á Alþingi eru síðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem lagt hafa fram frumvarp um að Ríkisútvarpið verði einkavætt og selt og vísa ég þar í formann menntamálanefndar, Sigurð Kára Kristjánsson en hann ásamt Pétri H. Blöndal og Birgi Ármannssyni hafa talað fyrir frumvarpi þessa efnis. Það frumvarp er sennilega einhver sérkennilegasta tilraun til lagasmíðar sem komið hefur frá frjálshyggjumönnum fyrr og síðar. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að eftir afnám Ríkisútvarpsins fái pólitískt kjörið útvarpsráð í  hendur skattfé sem það ráðstafi til dagskrárgerðar. Ráðstöfun skattfjárins fari fram með útboðum, en hið pólitískt kjörna útvarpsráð leggi mat á efnið, þar á meðal fréttaefni. Ekki gleyma þeir félagar öryggisþættinum, því einnig hann á að bjóða út! Þetta makalausa frumvarp kom til umræðu á yfirstandandi þingi og voru þeir Pétur og Birgir þá einir flutningsmenn. Áður hafði Sigurður Kári verið í hópnum en sennilega hefur þótt heppilegra að hann væri ekki á frumvarpinu að þessu sinni því sem formaður menntamálanefndar Alþingis fengi hann það hlutverk að sannfæra þjóðina um að ekki standi til að selja RÚV eftir hlutafélagavæðingu heldur hlú að því í hvívetna!   Hér er...

6. Apríl 2006

RÍKISSTJÓRNIN RÝFUR SÁTT UM RÍKISÚTVARPIÐ

Birtist í Morgunblaðinu 05.04.06.
 ...Leiðari Þorsteins Pálssonar byggir á glöggum skilningi og pólitískri prinsippfestu. Hann hittir einfaldlega naglann á höfðuðið. Það er rétt að skírskota til breiðrar pólitískrar sáttar þegar Ríkisútvarpið er annars vegar. Það er líka rétt að auglýsingatekjurnar hafi helst farið fyrir brjóstið á samkeppnisaðilum og sennilega einnig hægri kantinum í stjórnmálum. Vinstri menn hafa haldið uppi málstað Ríkisútvarpsins, hvað sem á hefur dunið, jafnvel þótt mörgum hafi oft þótt talsverð hægri slagsíða á stofnuninni, ekki síst  í seinni tíð. Nú er það hins vegar að gerast að sáttinni er sagt upp bæði til hægri og vinstri.
Það er mikill misskilningur hjá þeim forsvarsmönnum Ríkisútvarpsins, sem tala ákaft fyrir hlutafélagavæðingu, að stofnunin eigi vísan stuðning við...

5. Apríl 2006

HVERJIR HAGNAST Á MARKAÐSVÆÐINGU RAFMAGNS

Ríkisstjórn Íslands er óþreytandi við að reyna að sýna okkur fram á hve skynsamlegt sé að markaðsvæða raforkugeirann. Slíkt gefi góða raun. Að vísu reynist henni erfitt að sýna fram á ágæti þessa með dæmum því þau segja  allt aðra sögu. Í nýútkomnu blaði sænskra bæjarstarfsmanna SKTF-Tidningen,  er að finna frásögn af afleiðingum „markaðsvæðingar“ raforkugeirans í Svíþjóð. Sögusviðið er Stokkhólmur. Íbúar höfuðborgar Svíþjóðar höfðu rekið eigin raforkufyrirtæki Stockholm Energi. Það var einkavætt, varð fyrst Birka Energi sem síðan var gleypt af finnska stórfyrirtækinu Fortun. Síðan þetta gerðist, árið 2002, hafa rafmagnsreikningarnir í Stokkhólmi hækkað um 40%. Blaðið hefur eftir einum af  forgöngumönnum þess að Stockholm Energi var einkavætt, Mats Hulth, sem fór með fjármál borgarinnar þegar þetta var ákveðið, að eftir á að hyggja hefði...

4. Apríl 2006

FRUMVARP UM RÚV HF: ÓÚTFYLLTUR VÍXILL TIL FRAMTÍÐAR SEGJA STARFSMENN

Í dag var haldinn fjölmennur fundur starfsmanna Ríkisútvarpsins. Lögfræðingur BSRB, Erna Guðmundsdóttir, fór yfir frumvarp ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu á Alþingi og gengur út á að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Á fundinum flutti útvarpsstjóri , Páll Magnússon, einnig ávarp svo og ég sem sótti fundinn sem formaður BSRB. Fulltrúar  BHM og Rafiðnaðarsambandsins sóttu einnig fundinn. 
Einkum voru það réttindamál starfsmanna sem voru til umræðu og gerðu starfsmenn Ríkisútvarpsins alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar. Í ályktun sem samþykkt var samhljóða var harðlega gagnrýnt að þrátt fyrir að heildarsamtök starfsmanna hafi bent á mikilvægi þess að breyta frumvarpinu til að tryggja réttarstöðu starfsmanna hafi engar breytingar verið gerðar á frumvarpinu sem lýst var sem...

3. Apríl 2006

MISMUNANDI ÖRLÖG BÚIN: BBC OG RÚV

...BBC þarf, engu síður en heilbrigðisþjónustan, að taka stöðugum breytingum svo því takist að starfa á eins markvissan hátt í framtíðinni og það hefur gert hingað til." Þetta segir Tessa Jowell, menningarmálaráðherra Breta í formála að skýrslu um framtíð breska útvarpsins BBC sem út kom fyrir réttu ári, í mars 2005 undir heitinu, Review of the BBC´s Royal Charter. A Strong BBC, Independent of Government. Hvað þýðir þetta fyrir BBC? ... "Hvers ætlast fólk til af BBC, nú þegar framboð á efni er eins mikið og raun ber vitni? Við komumst að þeirri niðurstöðu að mestu máli skipti að vita hver væri vilji eigenda BBC, þeirra sem borga brúsann, greiða reikningana. Við ákváðum að snúa okkur til þeirra."  Og áfram heldur Tessa Jowell: "Með skoðnakönnunum, með tilstilli rýnihópa, opinna umræðufunda, með hjálp internetsins fengum við sjónarmið þúsunda og aftur þúsunda. Skoðanir þessa fólks voru afar skýrar...Allt þetta er óralangt frá því sem er að gerast hér á landi. Hér á sem kunnugt er að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Hlutabréfið verður sett undir einn ráðherra. Síðan mun kosið útvarpsráð og mun skipan þess endurspegla ríkisstjórnarmeirihluta á Alþingi hverju sinni. Útvarpsráðið ræður síðan útvarpsstjóra sem verður nánast einráður um mannahald og framkvæmd dagskrár...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta