Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

30. Desember 2006

HEIÐURSMAÐUR GEFUR ÍSLENSKA FÁNANN


Ég varð í gær þess mikla heiðurs aðnjótandi að taka við íslenska fánanum að gjöf frá Pétri Kristjánssyni, sem Reykvíkingum og landsmönnum mörgum er að góðu kunnur fyrir óeigingjörn störf um áratugaskeið. Varla hefur sá atburður átt sér stað í höfuðborginni þar sem þurft hefur að setja upp öflugan eða flókinn hljóðbúnað að Pétur hafi ekki stýrt þar málum. Pétur Kristjánsson er auk þess ötull félagsmálamaður, vakinn og sofinn í starfi fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og þar með BSRB.
Við afhendingu fánans lagði Pétur áherslu á nauðsyn þess að hafa íslenska fánann í heiðri og skyldu Vinstri græn minnast þess í komandi kosningabaráttu og í kjölfarið, hugsanlega við stjórnvöl landsins, að þeim vegnaði vel sem...

27. Desember 2006

SÉRA GUNNAR FÓR TIL BETLEHEM

Ég sagði hér á síðunni að mér fyndist að prestar landsins ættu að bregða sér til Betlehem samtímans í jólapredikunum sínum, ekki láta sér nægja að bregða upp mynd af atburðum þaðan fyrir tvö þúsund árum. Sú kúgun sem fólk á þar við að stríða núna hlyti að verða mönnum umfjöllunarefni. Mér var bent á að þetta hefði einmitt verið viðfangsefni í jólamessum prófastsins á Kjalarnesi, séra Gunnars Kristjánssonar á Reynivöllum í Kjós. Oft hef ég vitnað í frábærar predikanir séra Gunnars og geri nú enn. Í upphafi predikunar hans í jólamessu á Reynivöllum komst hann svo að orði: “Ég er að fara til Betlehem og ætla að vera þar yfir jólin” sagði kunningi minn þegar ég hitti hann fyrir nokkrum dögum. “Til Betlehem...” Upp í hugann kom myndin af Maríu og Jósef á leið yfir fjöllin til litla þorpsins sem er táknmynd í hugum kristinna manna. Þau voru einnig á leið til Betlehem. Við vorum í Litlu kaffistofunni vestan til á Hellisheiði. Barnabörnin, sem voru með afa á leið í Kjósina, hættu skyndilega að drekka skyrdrykkinn sinn þegar kunningi minn, sem er læknir, sagði þessa setningu: “Ég er að fara til Betlehem.” Svo bætti hann við að hann ...

24. Desember 2006

RÁÐHÚSIÐ SÝNIR REISN

...Vonandi boðar þetta lífsmark borgarráðs og borgarstjóra breytta tíð. Það er staðreynd að tveir aðilar eru háðir spilakössunum. Annars vegar eru það spilafíklar, sjúkt fólk sem fjármagnar nýbyggingar hjá Háskóla Íslands, húsnæði undir Guðfræðideildina, Siðfræðistofnun og Viðskiptaskor. Hins vegar eru það þeir aðilar sem fá tekjur sínar frá spilakössunum sem eru þeim háðir. Þetta eru hinir raunverulegu fíklar. Ég hef oft orðið var við reiði þessara aðila þegar amast er við starfsemi þeirra. Ég skildi snemma hvers vegna fáir tóku undir með mér í þinginu að andæfa gegn spilakössunum. Smám saman rann það upp fyrir mér að það er ekki aðeins HÍ sem var undir heldur einnig Rauði Krossinn og Slysavarnarfélagið og fleiri fjölmenn og vinsæl félög. Gæti fjölmennið, vinsældirnar og góður málstaður þessara félaga vera ástæðan fyrir því að þau eru látin komast upp með að níðast á veiku fólki...?

24. Desember 2006

LÖGGÆSLA OG ALMENN ÖRYGGISGÆSLA Á HENDI OPINBERRA AÐILA

Birtist í Morgunblaðinu 23.12.06.
...Móðgunargjörnum mönnum í opinberri þjónustu þætti þetta eflaust tilefni til þess að stinga niður penna og fara fram á afsökunarbeiðni. Það er þó fráleitt að persónugera málin með þessum hætti á hvorn vænginn sem er, hinn opinbera eða hinn einkarekna. Á báðum stöðum vinnur örugglega ágætt fólk, upp til hópa. Spurningin snýst hins vegar um fyrirkomulag, þau lög og þær reglur sem fólk starfar samkvæmt, þá menntun sem tilskilin er til að gegna tilteknum störfum og þau markmið sem stofnanir og fyrirtæki starfa samkvæmt. Þetta hefur ekkert með "lögun og innræti" einstaklinganna að gera eins og framkvæmdastjóri SVÞ talar um í grein sinni þegar hann gerir stjórn BSRB upp skoðanir...

22. Desember 2006

HVERJIR HAFA METNAÐ GUNNAR?


...Þykir mönnum þetta vera æskileg þróun? Er það æskilegt að fyrirtækin taki með beinum hætti “þátt í menntun barnanna okkar, eins og þau taka í auknum mæli þátt í stuðningi við íþróttastarf, menningu, listir og svo framvegis," svo vitnað sé beint í orð Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi. Á undanförnum árum hefur stefna stjórnvalda verið sú að lækka skatta við fyrirtæki en hvetja þau síðan til að koma með “frjáls” fjárframlög til lista, menningar, líknarstarfsemi og nú menntunar skólabarna. Skyldu menn hafa hugsað til enda hvað þetta þýðir fyrir lýðræðið í landinu? Í stað þess að skattar séu innheimtir og lýðræðislega kjörnir fulltrúar ráðstafi þeim síðan í þágu samfélagsins, eru það nú fjármagnseigendurnir sjálfir sem ákvarða hver skuli menntast og hvernig, hvaða listamaður skuli hljóta náð, hvaða safn verði sett á vetur og hvaða velferðarstarfsemi komist af. Með því að flytja fjárveitingarvaldið frá almenningi og fulltrúum hans til fyrirtækja og fjármálamanna er grafið undan lýðræðinu og við færð nær byrjunarreit 20. aldarinnar þar sem...

20. Desember 2006

VILJA LÖGMENN SEGJA SIG ÚR LÖGUM VIÐ SAMFÉLAG SITT?

...Það má vissulega deila um þá ákvörðun löggjafans að breyta niðurstöðu Kjaradóms á sínum tíma þótt Héraðsdómur taki sérstaklega fram að um þetta geri hann ekki ágreining. En að með ákvörðun sinni hafi Alþingi rýrt sjálfstæði dómstólanna þykir mér sem áður segir harla langsótt. Við skulum ekki gleyma því að fyrrverandi skipan þótti mörgum – þar á meðal þeim sem þetta ritar - aldrei við hæfi því dómarar komu sjálfir að tilnefningu fulltrúa í Kjaradóm og höfðu þannig óbein tengsl við þann sem úrskurðaði um þeirra eigin kjör...Hvers vegna ættu þeir að vera heilagar kýr? Og á meðal annarra orða; er ekki svoldið skondið hve mikinn skilning lögmenn hafa á kjörum lögmanna...?

20. Desember 2006

AFMÆLI FFR OG NÝR VEFUR

Síðastliðinn föstudag fögnuðu félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins 60 ára afmæli félagsins en það var stofnað 13. desember 1946, sama ár og Íslendingar fengu yfirráðarétt yfir Reykjavíkurflugvelli frá Bretum og tóku um leið við flugstjórn á Norður-Atlantshafssvæðinu. Stofnfélagar FFR voru 26 en nú eru félagsmenn um 160 talsins. Í tilefni afmælisins var opnuð glæsileg heimasíða FFR og er slóðin á hana...

18. Desember 2006

HVOR GEKK AF FUNDI VEGNA VERÐLEYNDAR, STEINUNN VALDÍS EÐA ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR?


...Á fundinum var þess krafist að stjórnarmenn hétu því að fara leynt með upplýsingar um raforkuverðið! Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður í Landsvirkjun og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, lagði þá fram tillögu um að leynd yrði aflétt og færði fyrir því rök. Enginn stjórnarmaður treysti sér til að styðja tillögu Álfheiðar en einn sat hjá, væntanlega Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fulltrúi Samfylkingar. Í Morgunblaðinu er haft eftir Steinunni Valdísi “að litlu hafi mátt muna að hún hafi fylgt í fótspor Álfheiðar Ingadóttur og gengið af stjórnarfundi” vegna kröfunnar um verðleynd. Þetta þótti Morgunblaðinu greinilega slík tíðindi að með fréttinni af útgöngu Álfheiðar var birt mynd af stjórnarmanninum sem næstum gekk út en ekki hinum sem lagði fram tillöguna og ...

16. Desember 2006

VIÐSKIPTARÁÐIÐ, EINKAFRAMKVÆMDIN OG FRÉTTASTOFA SJÓNVARPS


...Í framhaldi af lofgjörð um ágæti einkaframkvæmdar var haft eftir Viðskiptaráðsmönnum að vænta mætti frekari einkaframkvæmdar á komandi árum og var þar m.a. vísað til vegaframkvæmda. Hvernig væri nú að fréttastofa Sjónvarps legðist í sjálfstæða rannsókn á kostum og göllum einkaframkvæmdar. Til dæmis mætti kanna nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um einkaframkvæmd í vegagerð þar sem þessi kostur er ekki talinn ákjósanlegur fyrir skattgreiðendur... Einkaframkvæmd felur það hins vegar í sér að veita einkaaðila beinan eða óbeinan aðgang að skatthirslum almennings. Hvergi hefur verið gengið lengra á þessari braut en í Bretlandi. Þar hefur einkaframkvæmd reynst afar illa og hafa sérstaklega verið brögð af "framúrkeyrslum"! Í Bretlandi hefur og myndast eftirmarkaður með skóla og aðrar velferðarstofnanir þar sem einkaframkvæmdarsamningar ganga kaupum og sölum!
Á þessari heimasíðu hefur talsvert verið fjallað um rannsóknir á þessu efni og vísa ég hér í ...

15. Desember 2006

MISVÍSANDI UPPLÝSINGAR UM MANNAFLAÞÖRF Í HEILBRIGÐISKERFINU


...Sannast sagna ætla ég að leyfa mér að halda því fram að heilbrigðisþjónustan verði ekki afgreidd með alhæfingum af þessu tagi eins og skýrsluhöfundar Sivjar Friðleifsdóttur frá Hagfræðistofnun HÍ, gera í skýrslu sinni. Eða hvenær var það sannað að óheftur markaður tryggði hagkvæmustu nýtingu gæðanna? Ef niðurstaðan er ekki ásættanleg – eins og skýrsluhöfundar sjálfir gefa í skyn að hætt sé við að gerist í heilbrigðiskerfinu - er það þá eftir sem áður hagkvæmasta nýtingin? Skýrsluhöfundar virðast þannig ekki aðeins vera í mótsögn við Landlæknisembættið varðandi mannaflaþörfina heldur einnig við sjálfa sig varðandi pólitíkina...

14. Desember 2006

BSRB FAGNAR ÁKVÖRÐUN RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ HVERFA FRÁ EINKAVÆÐINGU ÖRYGGISGÆSLU Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI

Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að færa öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli undir opinbera aðila að nýju. Eins og fram kom í fjölmiðlum í sumar var einkafyrirtæki falið að annast hluta öryggisgæslunnar gegn hörðum mótmælum Landssambands lögreglumanna, Tollvarðafélags Íslands og heildarsamtakanna BSRB.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er í samræmi við ...

13. Desember 2006

HVERS VEGNA HUNSAR ÞINGMEIRIHLUTINN LÝÐHEILSUSTÖÐ?

Í rannsóknarskýrslu sem unnin er af Lýðheilsustöð og Háskólanum á  Akureyri  og er hluti fjölþjóðlegrar samanburðarrannsóknar kemur fram að börn sem búa við fátækt á Íslandi hreyfi sig minna en önnur börn, borði sjaldnar hollan mat og séu líklegri til að vera of þung og feit en börn efnameira fólks. Í Morgunblaðinu í dag er leitað eftir viðbrögðum stjórnvalda við þessum niðurstöðum...Ég gef lítið fyrir orð ríkisstjórnar sem skrifar undir alla fínu sáttmálana í útlöndum, gefur út fjálglegar yfirlýsingar um mikilvægi þess að hafa heilbrigði að leiðarljósi við stefnumótun en gerir síðan eitthvað allt annað. Hvers vegna skyldi Lýðheilsustöð hafa verið sett á laggirnar fyrir þremur árum? Til að monta sig af framtakinu? Til að virða orð hennar, viðvaranir og ábendingar að vettugi? Hvers vegna er fremur hlustað á sjónarmið gosdrykkjaframleiðenda en talsmenn hollustunnar? Væri ekki rétt að...

10. Desember 2006

BÓNDINN Á BAKKA OG ÁLITSGJAFINN FRÁ HÓLUM Í HJALTADAL

Lífið snýst ekki bara um viðskipti, sagði bóndinn á Bakka, heldur um börn, fjölskyldu og samfélag. Heyrt hef ég í fólki sem tendraðist upp. Einn þeirra var fyrrum skólameistari bændaskólans á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði, þar áður bóndi í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi og enn lengra aftur bóndasonur á Ströndum. Þetta er að sjálfsögðu Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.
Jón Bjarnason hringdi í mig í kvöld og spurði hvort ég hefði heyrt þetta viðtal við Ásthildi Skjaldardóttur. Það hafði ég ekki gert en hlustaði á það á netinu að ráði Jóns. Eftir að hlusta á viðtalið við Ásthildi skil ég hvers vegna Jón Bjarnason hafði hrifist.
Það er einfaldlega traustvekjandi að hlusta á fólk sem hefur trú á sjálfu sér, íslenskum landbúnaði og að hann eigi erindi inn í framtíðina. Í kvöld segir ...

7. Desember 2006

Á EKKI AÐ HLUSTA Á LÝÐHEILSUSTÖÐ? FJÖLMIÐLAR KYNNI SÉR MÁLIÐ !

Nú reynir á hvort stjórnvöld vilji hlíta þessari ráðgjöf. Fyrir Alþingi liggur nefnilega frumvarp sem Lýðheilsustöð þykir í einu veigamiklu efni stríða gegn manneldissjónarmiðum. Þetta er frumvarp sem gengur út á lækkun vörugjalda og virðisaukaskatts á matvæli. Flestir hafa fagnað þessu frumvarpi að öðru leyti en því sem lýtur að lækkun virðisaukaskatts á gosdrykki. Það er einmitt þessi þáttur sem Lýðheilsustöð gagnrýnir. Í bréfi sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis barst í dag frá Lýðheilsustöð vegna þessa frumvarps segir meðal annars...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta