Annað
30. Júní 2005
VIÐSKIPTABLAÐIÐ MEÐ VATN Í MUNNI

Á Viðskiptablaðinu er mönnum mjög niðri fyrir. Þar á bæ vilja menn einkavæða flugvelli landsins. Þetta hafi verið gert í Ungverjalandi, Indlandi, Hong Kong og Mexíkó. Er ekki komið að Reykjavíkurflugvelli, spyr Viðskiptablaðið með vatnið í munninum fyrir hönd væntanlegra fjárfesta. Nei, segir Sturla samgönguráðherra, engin áform séu um einkavæðingu flugvalla, “það hefur ekki verið neitt uppi á teningnum.”. En hvað skyldi Framsókn segja? Það stendur ekki á svari hjá þingflokksformanninum Hjálmari Árnasyni, hann telur vel koma til álita að fela einkaaðilum reksturinn á Reykjavíkurflugvelli: “Það er náttúrlega tækifæri sem væri sjálfsagt og eðlilegt að skoða. Varðandi aðra flugvelli ...
21. Júní 2005
MYNDIRÐU STÖKKVA OFAN AF SÍVALATURNINUM?
Í kvöld sýndi RÚV danska heimildarmynd um Kristjaníu. Hún er í hjarta Kaupmannahafnar þar sem áður voru stöðvar danska hersins. Á hippatímanum, í lok 7. áratugar síðustu aldar, var myndað eins konar fríríki í Kristjáníu. Þar kom sér fyrir allstór hópur fólks, sem ekki sætti sig við reglustrikusamfélagið og má segja að óvíða hafi anarkískt skipulag náð að skjóta rótum eins rækilega og í Kristjaníu. Þessu fékk ég tækifæri til að kynnast ögn þegar ég gerði sjónvarpsþátt um Kistjaníu á árinu 1988 en þá var ég fréttamaður Sjónvarpsins á Norðurlöndum, staðsettur í Kaupmannahöfn. Hin anarkíska stjórnskipan í Kristjaníu var mjög lýðræðisleg og byggði hún á allföstu formi. Þegar ég lagði leið mína um Kristjaníu síðastliðið sumar þóttist ég sjá merki ýmissa breytinga í átt til "borgaralegs samfélags" í hluta Kristjaníu, þótt annars staðar væri yfirbragðið svipað og áður fyrr. Í dönsku heimildarmyndinni voru ...20. Júní 2005
UM BARTSÝNISMENN OG BÖLSÝNISMENN
Forsætisráðherra þjóðarinnar hélt venju samkvæmt ræðu á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Um sumt var ræðan ágæt, tilvitnanir í þjóðskáldin íslensku og spakmæli frá fyrri tíð. Framtíðarsýn forsætisráðherrans er hins vegar ekkert sérstaklega íslensk, miklu frekar bandarísk; forsætisráðherra sér það fyrir sér að fyrirtæki taki yfir verkefni í menningu, listum og samfélagsþjónustu sem fram til þessa hafa verið á vegum samfélagsins. Hálfnöturlegt er að heyra þennan boðskap frá Austurvelli á þjóðhátíðardaginn. Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra varð í ræðu sinni nokkuð tíðrætt um bjartsýnismennn og bölmóðsmenn. Ef menn horfðu...
15. Júní 2005
VALGERÐUR HITTIR VALGERÐI FYRIR – OG NOKKRA GAMLA FÉLAGA

Valgerður Sverrissdóttir bankamálaráðherra hefur vakið nokkra athygli að undanförnu með tilfinningaþrungnum yfirlýsingum um þá þróun sem nú á sér stað á íslenskum fjármálamarkaði. Hefur hún hnjóðað nokkuð í Björgólf Guðmundsson og aðra umsvifamikla fjármálamenn og þykir þeir vera heldur betur að færa sig upp á skaftið í samfélaginu...Þar horfa menn til manna á borð við Þórólf Gíslason á Sauðárkróki, eins helsta fjáröflunarmanns flokksins til áratuga, Finns Ingólfssonar, fyrrum varaformanns og Ólafs Ólafssonar eins helsta fjármálagúrús flokksins til langs tíma. Tveir hinir síðarnefndu birtust sællar minnigar skælbrosandi á baksíðu Morgunblaðsins þegar þeir höfðu handsalað kaupin á Búnaðarbankanum í árslok 2002, nokkuð sem er til umræðu þessa dagana. Þess má geta í...
14. Júní 2005
ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN, RÁÐGJÖFIN OG EIN LÍTIL SPURNING
...Í fréttum í dag kom fram að hér hefði verið á ferð fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, og viti menn, hann vildi samdrátt í ríkisútgjöldum, leggja Íbúðalánasjóð niður hið bráðasta og láta stíga á bremsurnar gagnvart launafólki. Reyndar brá hann út af venjunni að einu leyti. Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðisins vildi láta fresta skattalækkunaráformum ríkisstjórnarinnar. Ástæðan var að sjálfsögðu þensluvaldandi stóriðjuframkvæmdir á vegum ríkisstjórnarinnar. Þegar ég heyrði fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins dósera á þennan hátt í morgunfréttum vaknaði ein lítil en ágeng spurning í mínum huga...
13. Júní 2005
FJÖLMENNI HJÁ BSRB Í MUNAÐARNESI
Fullt var út úr dyrum á vel heppnaðri menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi um síðastliðna helgi. Opnuð var sýning á verkum Önnu Hrefnudóttur, myndlistarkonu. Þorteinn frá Hamri, skáld, las úr ljóðum sínum, bæði birtum og einnig úr óbirtum handritum. Þetta var stund með skáldinu sem margir munu án efa geyma í minningu sinni. Þá söng Skagfirska söngsveitin af miklum krafti og við mikinn fögnuð viðstaddra. Eftir vel heppnuð skemmtiatriðin var ...12. Júní 2005
DANSI DANSI DÚKKAN MÍN
Björgólfur Guðmundsson svífur inn gólfið á gamla íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu í Reykjavík. Margir bestu listamenn þjóðarinnar – leikarar Þjóðleikhússins - höfðu beðið komu hans af eftirvæntingu. Hljómsveit hóf að leika þegar formaður stjórnar Landsbankans og helsti eigandi bankans gekk í salinn. Hann var kostunarmaður nýs sviðs í leikfimihúsiunu. Allir voru þakklátir. Geysilega þakklátir. Þarna yrði hægt að sýna mikilvæg listaverk. Verk sem menn án efa telja að eigi eftir að lyfta andanum. Þjóleikhússtjóri – ég sá ekki betur í ítarlegri sjónvarpsfréttinni en það væri hún ...
10. Júní 2005
MINNT Á MENNINGARHÁTÍÐ BSRB Í MUNAÐARNESI

Ljáðu mér eyra eftir Önnu Hrefnudóttur.
Árleg Menningarhátíð
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












