Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

27. Nóvember 2003

Ríkisstjórn Reykásanna

Birtist í Fréttablaðinu 26.11.03
Allir þekkja Ragnar Reykás þeirra Spaugstofumanna. Hann er persónugervingur hentistefnunnar, kann öllum öðrum betur að haga seglum eftir vindi, venda sínu kvæði í kross ef honum þykir henta. Ragnar Reykás á fáa sína líka. Það er helst að hann finni jafningja sína í  ríkisstjórn Íslands. Hún hefur átt stórfenglega spretti í uppákomum af því tagi sem Ragnar er kunnur fyrir.
Að öðrum ólöstuðum stendur forsætisráðherrann flestum framar hvað þetta varðar. Að undanförnu höfum við kynnst vandlætaranum Davíð Oddssyni með seðlabúntið í annarri hendinni, volgt úr fjárhirslum Búnaðarbankans, og Passíusálma Hallgríms Péturssonar í hinni. Þetta er sami maður og fyrir örfáum misserum hvatti þjóðina til dáða í lífsgæðakapphlaupinu...

21. Nóvember 2003

Valgerði ögrað og Davíð vill að menn sýni ábyrgð!

Það er alveg rétt hjá Valgerði Sverrisdóttur bankamálaráðherra að hún hefur ekki verið með stór orð "um það sem er að gerast á markaðinum" en þeim mun stærri hafa gjörðir hennar verið. Eru það ekki nýju "kjölfestufjárfestarnir" sem hún fékk Búnaðarbankann í hendur sem eru að gera þessa samninga við stjórnendur sem þeir telja vera þyngd sinnar virði í gulli? Getur það virkilega verið að ráðherrar ríkisstjórnarinnar sjái ekkert samhengi á milli eigin gjörða og hvernig komið er meðferð fjármuna í þjóðfélaginu? Forsætisráðherrann, Davíð Oddsson, hefur sýnt okkur í fréttaviðtölum í dag að hann gerir það ekki! Hann kemur af fjöllum og...

13. Nóvember 2003

Björgólfur og Bandaríkin lýsa áhyggjum

Birtist í Fréttablaðinu 12.11.2003
Í sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins  var mjög athyglisverð grein um Búlgaríu og afskipti "okkar" manna af málum þar. Í samantekt blaðamanns af eigin frásögn kom eftirfarandi fram: " Björgólfur Thor Björgólfsson lýsir þungum áhyggjum erlendra fjárfesta af hægfara einkavæðingarferli í Búlgaríu. Hann flutti framsögu á ráðstefnu helstu áhrifamanna í búlgörsku viðskiptalífi. Sjónarmiðin hafa vakið athygli búlgarskra fjölmiðla. Kaup hans og annarra á búlgarska landssímanum eru í pólitískum hnút."

9. Nóvember 2003

Söfnum fyrir Sjónarhól

Birtist í Morgunblaðinu 08.11.2003
Mörgum reynist nefnilega erfitt að finna lykilinn að þeirri velferðarþjónustu sem er í boði eða á að vera í boði lögum samkvæmt. Þetta er frábært framtak og vona ég að sú landssöfnun sem er framundan skili góðum árangri. Það mun gagnast börnunum og fjölskyldunum sem í hlut eiga og það er mín sannfæring að það muni einnig styrkja velferðarþjónustuna, stuðla að því að hún verði opnari og markvissari...

5. Nóvember 2003

Tvær bækur, Donald Rumsfeld og George Orwell

Nýlega fékk ég að gjöf tvær bækur. Af stríði heitir önnur þeirra og er gefin út af Nyhil útgáfunni, hin ber titilinn Ljóðin þín, eftir Harald S Magnússon. Gefendum kann ég hinar bestu þakkir. Ritstjóri fyrrnefndu bókarinnar er Haukur Már Helgason og er hann stórskemmtilegur penni. Bókin ber þess merki að hún verður til í aðdraganda Íraksstríðsins. Þeir sem skrifa í bókina eru ekki stuðningsmenn þess stríðs – að einum undanskildum: Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra, Bandaríkjanna. Sem listamaður mun ljóðskáldið Donald Rumsfeld vera lítillætið uppmálað, hafði ekki einu sinni gert sér grein fyrir því að hann væri ljóðskáld...

31. Október 2003

Áhrifamikill leikþáttur um einelti

Þetta er ekki leikdómur heldur hvatning til allra að sjá þetta verk. Á rúmum klukkutíma fáum við innsýn í veröld þjáningar, sem því miður er sennilega allt í kringum okkur án þess að við gerum okkur það alltaf ljóst. Leiksýningin er gefandi og skemmtileg, eins mótsagnakennt og það kann nú að hljóma í ljósi þess hvert viðfangsefnið er. Það eigum við hins vegar góðu leikriti og ekki síður frábærum leik Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur að þakka...

29. Ágúst 2003

Til varnar tjáningarfrelsi

Birtist í DV 28.08.2003
Stöð tvö er fyrirtæki sem lýtur stjórn eigenda sinna. Samkvæmt því er þeim í sjálfsvald sett hver er ráðinn og hver er rekinn. Og nú hafa þeir rekið Árna Snævarr, fréttamann. Látið hefur verið í veðri vaka að hann hafi ekki sýnt eigendum sínum trúnað. Hann er sagður hafa upplýst þegar þessir sömu eigendur reyndu að hafa afskipti af fréttum stöðvarinnar. Ekki heyrist mér á fréttaviðtölum að Árni Snævarr skrifi upp á að svo hafi verið. Tilefnið voru fréttir af laxveiðum - það kemur þessu máli hins vegar ekki við fremur en hver lak hverju og í hvern. Alvarlegast er að fréttamaður er rekinn úr starfi fyrir að vilja verja sjálfstæði fréttamanna.

25. Ágúst 2003

Vöndum val á vinum

Án efa er oft úr vöndu að ráða fyrir forseta Íslands þegar gestir sækja okkur heim eða þegar þjóðhöfðinginn þiggur heimboð annarra. Varla ræður hann þá dagskránni. Ég get mér þó til að hann geti að einhverju leyti haft áhrif, t.d. hvort þegið skuli boð um að ferðast í einkaþotu frá Rússlandi til Englands til að horfa á fótboltaleik...

8. Ágúst 2003

Kókdósin við Borgarnes

Getur verið að við eigum eftir að venjast kókdollunni við Borgarnes? Getur verið að eftir nokkur ár fari okkur að þykja vænt um gömlu góðu kókdósina að Hamri?
Ég held ekki....

10. Júní 2003

Menningin blómstrar í Munaðarnesi

Um helgina var opnuð sýning á verkum Önnu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu í orlofsbyggðum BSRB í Munaðarnesi. Í tengslum við opnunina var að venju efnt til Menningarhátíðar. Þótt að sönnu megi segja að menningin blómstri í Munaðarnesi sumarlangt  því salarkynni þar verða prýdd verkum Önnu fram á haust þá er sú Mennnigarhátíð sem efnt var til við opnunina ekki löng en svo mögnuð að við hjá BSRB treystum okkur til að skrifa hana með stórum staf. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona – Diddú – söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara. Húsfyllir var að sjálfsögðu og hreif Diddu alla viðstadda og Jónas Ingimundarson fór á kostum í tali og tónum. Pétur Gunnarsson rithöfundur ávarpaði gesti og las upp úr verkum sínum bæði í bundnu máli og óbundnu. Var gerður sérlega góður rómur að. Myndir Önnu Gunnlaugsdóttur  á sýningunni eru andlitsmyndir kvenna. Ég virti fyrir mér gestina á opnunarhátíðinni í Munaðarnesi horfast í augu við konurnar hennar Önnu og sá ég ekki betur en vel færi á með þeim.

9. Mars 2003

Hugsjónir hafa aldrei slokknað innan Lúðrasveitar verkalýðsins

Þetta ávarp birtist í afmælisriti sem gefið var út í tilefni af
afmælistónleikum á 50 ára afmælisdegi Lúðrasveitar verkalýðsins 8. mars.  
Ávarp Ögmundar Jónassonar á hálfrar aldar afmæli Lúðrasveitar verkalýðsins:
Eftir því sem ég kemst næst mun Lúðrasveit verkalýðsins vera eina lúðrasveitin sem fram hefur komið undir nafni verkalýðssamtaka á Íslandi.

25. Febrúar 2003

Vafrað um á kaupþingi.is

Til umræðu í fjölmiðlum hafa verið launakjör forstjóra Kaupþings. Þau námu 70 milljónum króna í fyrra. Þar af voru 58 milljónir í kaupauka. Morgunblaðið á sunnudag upplýsir að 20% séu greidd í lífeyrissjóð. Síðan eru önnur vildarkjör tilgreind. En uppsagnarfresturinn er sex mánuðir. Mér skilst að það þyki þungir kostir. Og vissulega er svo borið saman við starfslokasamning Þórarins V. Þórarinssonar upp á tæpar 40 milljónir. Að sögn var það til að greiða fyrir tvö og hálft ár í starfi.

18. Febrúar 2003

Spilafíklar eru venjulegir Íslendingar

Birtist í Mbl. 16.02. 2003
Í Morgunblaðinu 11. febrúar birtist grein eftir Kristbjörn Óla Guðmundsson stjórnarformann Íslenskra söfnunarkassa sf. Aðild að þessu kassasamlagi eiga SÁÁ, Rauði krossinn og Slysavarnafélagið Landsbjörg þar sem Kristbjörn er jafnframt framkvæmdastjóri. Tilefni skrifanna er augljóslega það sem hann kallar "sérstaklega ósmekklegar" ásakanir í garð aðstandenda spilavéla; fullyrðingar um að þeir noti sér “veikindi fólks til að halda úti starfi sínu".

20. Janúar 2003

Þarf frekar vitnanna við?

Birtist í DV 20.02.2003
Í gærkvöldi var sýndur áhrifamikill sjónvarpsþáttur um spilafíkn í ríkissjónvarpinu. Þar fékkst staðfest sem andstæðingar spilakassa hafa haldið fram um nokkurt árabil: Spilafíknin hefur sært margan einstaklinginn og fjölskylduna holsári. Fólk hefur tapað aleigunni og gott betur. Fjölskyldur hafa sundrast og einstaklingar jafnvel tekið líf sitt, svo mikið hefur þeim þótt svartnættið fram undan.

8. Janúar 2003

Ánægja með viðbrögð

Þegar ég opnaði þessa heimasíðu fyrir fáeinum vikum hefði mig aldrei órað fyrir hve viðbrögðin yrðu jákvæð. Í fyrsta lagi kemur í ljós að mikill fjöldi fólks fylgist með síðunni. Í öðru lagi er hún að verða kröftugur umræðugrundvöllur. Lesendabréf streyma inn á síðuna stríðum straumi og að mínum dómi eru þau mjög áhugaverð og sum og reyndar flest sérstaklega vel skrifuð og kveikja í mönnum og hvetja þannig til frekari umræðu. Þá er til sögunnar kominn sérstakur dálkur um fjölmiðla þar sem frjálsir pennar láta til sín taka.
Séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum ríður á vaðið og sannast sagna er ég mjög stoltur af því að sá mæti maður skuli reiðubúinn að leggja orð í belg á síðunni.

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLÆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIÐ VONBRIGÐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGÐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓÐ KVEÐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta