14. Maí 2012
... „Það á ekki að vinna gegn starfsmöguleikum fyrrverandi þingmanna að þeir hafi setið á Alþingi...", segir DV undir mynd af nýskipuðum stjórnarformanni Íbúðalánasjóðs, Jóhanni Ársælssyni. Látið er fylgja syndaregistur stjórnmálanna. Þarna er mótsögn í verki. Af þessu tilefni langar mig að segja tvennt. Það er ekki óeðlilegt að ráðherra með lýðræðislegt umboð skipi stjórnarformann í félagslegum sjóði sem rímar við þau viðhorf sem stjórnvöld vilja í heiðri hafa. Allt öðru máli gegnir þegar ráðið er til almennra embættisstarfa í stjórnsýslunni. Í öðru lagi langar mig til að leggja í umræðupúkkið reynslu mína af störfum Jóhanns Ársælssonar...
13. Maí 2012
Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...
Sunna Sara
13. Maí 2012
Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.
11. Maí 2012
Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af. Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...
11. Maí 2012
...Á vefritnu Eyjunni er fjallað um ávarpsorð mín í Öskju í gær og þeim gerð ágæt skil. Neðanmáls við þá umfjöllun taka síðan álitsgjafar við og gefa skoðunum mínum og máflutningi einkunn, þar á meðal nokkrir Stjórnlagaráðsfulltrúar. Einn þeirra spyr hvers vegna ég hafi ekki verið gerður að heiðursfélaga í Sjálfstæðisflokknum! Það er Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands, sem á það framlag til umræðunnar. Eiríkur Bergmann, háskólakennari á Bifröst, er álíka málefnalegur og segir: „Ögmundur vill greinilega halda völdunum í eigin hendi, og vina sinna í valdastólum." Ekki hef ég fengið botn í hvað hér gæti verið átt við. Ég er ýmsu vanur úr opinberri umræðu um margvísleg efni en einhverra hluta vegna þóttu mér þessi viðbrögð þessara tveggja Stjórnlagaráðsmanna og kennara vera ...
8. Maí 2012
...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn
8. Maí 2012
Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
7. Maí 2012
Hræsni Samfylkingarinnar er söm við sig í kvótamálinu og Grímsstaðaævintýri þeirra og Nubos: Ef Nubo fær Grímsstaði til 40 eða 99 ára nýtingarréttar, mun það sama þá gilda um kvótagreifana???? Hver er eiginlega hin lagalega stefna Samfylkingarinnar, að maður minnist nú ekki á hina framkvæmdalegu, pólitísku og siðrænu???? Svo má vitaskuld, eins og þú veist manna best, einnig spyrja ...
Pétur Örn Björnsson
7. Maí 2012
Ég er svo hjartanlega sammála Ögmundi, varðandi Grímstaðamálið. Við þurfum að nýta betur það sem við höfum.Ég gerði tilraun með að byrja að kenna börnum mínum 3 mánaða gömlum. Í dag eru öll börn mín 3 hámenntuð, þar af eru tvö sem skapa sér og öðrum atvinnu með uppfinningum. Eitt af börnum mínum er eðlisfræðiprófessor við háskóla erlendis.
Ég kenndi börnum mínum ...
Gísli Engilbertsson
6. Maí 2012

...Reglan um húsbændur og hjú hefur aldrei verið geðfelld og á ekki að vera við lýði í víðernum Íslands. Meðal annars þess vegna eru mínar efasemdir um kaup Kínverja á Grímsstöðum. Gildir einu hvort um er að ræða sjálfstæðan auðkýfing eða ríkisrekinn. Hið fyrra er þó illskárra. Alla vega þegar stórveldi á í hlut með strengina á hendi - aðætla má. Íslensk stjórnvöld eiga hins vegar ekki að hafa nein afskipti af málinu, segja íslenskir fulltrúar hinna erlendu fjárfesta. Talsmaður þeirra sagði í Sjónvarpsfréttum í kvöld að slík afskipti flokkuðust undir geðþóttavald! En til hvers ...
6. Maí 2012
Einu sinni þoldum við ekki nærveru Englendinga svo mikið sem innan við hafsbrún og þjóðin fór í þorskastríð. Íslendingar höfðu sitt í gegn. Ekki síst þar sem andstæðingurinn gat ekki hundsað leikreglur lýðræðis - við nutum smælingja samúðar m.m.. Samanber tilvitnun Kissingers í Bismarck um tyrani lítilmagnans. Núna bregður svo við að hleypa á öflugasta einræðisríki heimssögunnar inn - ríki sem hundsar leikreglur lýðræðis. Og ekki bara hleypa því inn...
Emil J. Ragnarsson
6. Maí 2012
...Þannig getur sauðsvartur almúginn ekki með góðu móti tekið afstöðu til um hvað þetta Núpó-mál snýst því engar upplýsingar hafa komið fram um hvað stendur til. Formlega hlið málsins er þó ljós og hægt að taka afstöðu til hennar. Það eru kvaðir á sölu á jörðum til útlendinga og tilboð Núpó og félaga virðist hafa þverbrotið þau. Af frásögn Núpós er ljóst að þá höfðu stjórnvöld samband við hann ítrekað og bentu á leið framhjá lögunum. Tillagan virðist hafa verið sú að kaupa ekki heldur staðgreiða langtímaleigu. Það er búið að breyta nafngift viðskiptanna en efnahagsleg áhrif þau sömu. Arfleifð þessarar ...
Kjartan
6. Maí 2012
Ótrúlegur er hroki kínverska auðmannsins að leyfa sér að ráðast á íslenskan ráðherra fyrir að vilja verja hagsmuni lands og þjóðar. Hvernig verður hann eftir að búið er að byggja þorpið á Grímsstöðum og flugvöllinn? Þá hótar hann að fara með alla peningana ef hróflað verður við honum og ...
Jóel A.
6. Maí 2012
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, kom fram í fjölmiðlum í gær með undarlega stjórnmálaskýringu: „Við höfum haft ríkisstjórnir hægri, vinstri flokka, ríkisstjórnir hægri, miðjuflokka og ríkisstjórnir vinstri miðjuflokka. En þetta er í fyrsta skipti síðan í kreppunni miklu fyrir stríð að stjórnin er algjörlega einsleit. ...Hvað er maðurinn að fara? Flokksheiti segja ekki allt um innihaldið. Þannig er Samfylkingin ekki mikill vinstri flokkur og VG hefur verið að færast í hægri áttina einnig, þa.e. að hluta til. Átakalínan hefur því að takmörkuðu leyti legið milli þessara flokka...
Jóhannes Gr. Jónsson
6. Maí 2012
Ertu ennþá að blekkja sjálfan þig? Jafnvel þótt þér takist að koma í gegn útþynntu nasistafrumvarpi, og haldir því þannig á meðan þú ert ráðherra, þá veist þú vel að þessir sjúklingar hætta ekki fyrr en hreinræktað nasistafrumvarp verður að veruleika, með næsta ...
Símon
6. Maí 2012
...Þú ert eini a landinu sem sem sérð frammtiðarskerðingu a landinu og hvað verður af Kinverjum eftir 40 ár. Hvað veit eg en samningar væru ekki löglegir hjá mér i dag ef ég ættlaði að kaupa mer hús og svo leigja húsið út en hefði þörf a að fá lán frá leigjanda til að geta það. Sem sagt, klikan og reddun! Eiinhver á Íslandi eru að "redda" þjóðinni i skaðan. Þettað er allt bakdyra vélrað...
Maria
6. Maí 2012
Ögmundur, ekki hlusta á þennan Erling Bergvinsson, því hann talar eins og Lúðvík Begvinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, en hefur í seinni tíð sést í Beijing á áróðursfundum með Nubo ásamt Kristínu Árnadóttur sendiherra þar...Þjóðin treystir því, að þú látir ekki þetta HRUNAPAKK ganga erinda, sem fyrr, fjárdólga til að sölsa undir sig landið og auðlindir þess. Nóg höfum við þurft að súpa seyðið af ábyrgðarleysi og græðgi þessa sérgæsku fólks. Þetta lið ætti barasta að halda kjafti og skammast sín.
Margrét Ólafsdóttir
5. Maí 2012
Ögmundur það er rétt hjá þér - það vill enginn hugsandi Íslendingur fá útlendinga sem leigjendur eða eigendur á Grímsstaði eða nokkurn annan stað á Íslandi. Almenningur hefur það á tilfinningunni að verið sé að selja Ísland undan fótum okkar fyrir stundarhagnað. Og hvert eigum við þá að fara þegar kínverjar eru búnir að yfirtaka landið??
Gréta Adólfsdóttir
5. Maí 2012
Sæll, er í alvöru ekki hægt að banna þetta. Og þetta með skítugu skóna er svo rétt hjá þér. Takk fyrir þína afstöðu. Kveðja frá sjálfstæðiskonu
5. Maí 2012
Fái kínverskir auðkýfingar Grímsstaði er það upphaf mikillar ógæfu Íslands.
Jóhannes Kristjánsson
5. Maí 2012
... Er nú ekki kominn tími til Ögmundur, að þú beitir ÖLLU því sem þú getur í málinu? Nú er nóg komið Ögmundur! Þú átt stórleik í stöðunni: Nú segir þú ákveðið Nei við Nubo eða þú sprengir þessa ríkisstjórn Ögmundur! Þú hefur málið í hendi þér. Ég treysti því að þú bregðist ekki Ögmundur.
Símon
5. Maí 2012
Sæll, mikið er málflutningur þinn oft ömurlegur.Og núna séstaklega í Grímstaðamálinu.Hvaða skítugu skó ert þú að tala um, og hvaða þjóð? Heldur þú að þú sért sérstakur fulltrúi þessarar þjóðar og hún fylgi þínum þröngu skoðunum í einu og öllu?
Erlingur Bergvinsson
5. Maí 2012
...Geturðu ímyndað þér raskið sem af þessu mun hljótast? Var ekki nóg að eyðileggja Hafrahvammagljúfur, sökkva Kárahnjúkum og leggja...Skilur þetta fólk ekki hvað það er að gera? Er þetta réttlætanlegt til þess að kom okkur fyrr upp úr kreppunni? Að eyðileggja óspillta náttúru landsins? Af hverju í ósköpunum getur maðurinn ekki byggt sitt ferðamannaþorp annars staðar? Hvað liggur eiginlega þarna að baki? Ég kaus VG til að standa vörð um náttúruna og vinna að jöfnuði á meðal manna. Lúxushótel, golfvöllur, flugvöllur og tilheyrandi á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum fellur ekki undir stefnu VG að mér vitandi. Hvað er til ráða..
Hilda B. Birgisdóttir
5. Maí 2012
...Ég vona svo heitt og innilega að þú hafnir Nubo um beiðni sína. Sem venjuleg manneskja með lítið vit á pólitík þá er ég ekki svo skyni skroppin að ég finni ekki skítalyktina af þessum blessaða samningi. Ég er nokkuð viss um að margir kjósendur eru sama sinnis og ég.
Helga
5. Maí 2012
...nú hafa kræsingarnar sem iðnaðarráðherra býður upp á í Nubo-málinu verið bornar á borð. Fnykinn leggur þegar um allt. Margir hafa talað af viti gegn ásælni stórþjóðar í okkar garð og ég vona að þau ríku rök séu ekki gleymd heldur muni duga svo óætinu verði ekki kyngt. Fram með náttúruverndarrökin, upp gegn græðginni! ...
Ásdís
5. Maí 2012
Þakka þér fyrir afstöðu þína og framgõngu gagnvart erlendum yfirráðum á Íslandi.
Kveðja frá sjálfstæðismanni
5. Maí 2012
Ónáttúran í Íslendingum ríður ekki við einteyming - hún verður svo sannarlega ekki lamin til hlýðni með lurkum. Kínverjar líta auðvitað á Ísland sem óbyggt land. Hvernig getur lítið þjóðríki varið sig gegn fáeinum einstaklingum sem selja undan því fótfestuna?
Emil J. Ragnarsson
4. Maí 2012

...Auðjöfurinn Huang Nubo sem er í forsvari fyrir kínversku fjárfestingasamsteypuna sem vill fá afnotarétt yfir Grímsstöðum á Fjöllum til að reisa þar 20 þúsund fermetra hótelhúsnæði og gera flugvöll á svæðinu til að fljúga með túrista til að njóta einsemdarinnar í Herðubreiðarlindum, hrósar nú happi yfir því að innanríkisráðherra Íslands sé ekki í færum (lengur) til að eyðileggja áform sín. Erlend ríki fylgjast með þessum tilraunum Kínverja að fá fótfestu á Íslandi. Þau líta flugvallardraumana öðrum augum en íslenskir sveitarstjórnarmenn við samningaborð Núbós. Þar hafa menn stórveldahagsmuni í huga, líka þegar menn segjast vilja kíkja upp í hinintunglin, eða voru það...
4. Maí 2012
...Þekkt er það módel, að erlendir aðilar komi sér upp einingu í áhugaverðu landi, reisi tilbúið þorp, sjái um alla þjónustu og taki jafnframt (nær) allan arð til sín. Sjá t.d. Club Mediterranée á norðurströnd Afríku. Heimamenn fá að vísu vinnu við uppvask o.s.frv., en starfsemin er í höndum útlendinga... Þessi tegund ferðmensku er sérstaklega tíðkuð af kínverjum, sem reisa þorp fyrir sitt fólk. Kínverksur þjónustuaðili (eigandi) sér um allt og á allt, mat, gistingu, skoðanaferðir etc. og hirðir væntanlega allan arð af því sjálfur. Mývatn, Dettifoss, þola ekki mikinn ágang. Honum þarf brátt að stýra - og takmarka - eins og fiskimiðunum. Setja kvóta? Hvað höfum við þá að gera við kínverksa "risaútgerð" á Grímstöðum, vafalaust með kínversku starfsfólki að mestu?...
Ragnar Ólafsson
3. Maí 2012
Heill og sæll. Nú heiti ég á þig Ögmundur, hæstvirtur Innanríkisráðherra, að þú sýnir á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn, 4. maí 2012 að þér er ísköld alvara með andstöðuna gegn fjáfestingaráformum Huang Nubo. Allt þetta mál hefur sýnt fram á það hvað margir opinberir embættismenn, samtryggðir stjórnmálamenn og sveitarstjórnarmenn eru undarlega falir fyrir fé og ræður þar mestu þeirra eigin vesaldómur og algjöra ábyrgðarleysi, enda vanir því að krefjast ríkisverðtryggðra réttinda sinna, án nokkurra skyldna við land og þjóð. Þeir hafa ...
Jón Jón Jónsson
2. Maí 2012
Það er auðvelt að kaupa Íslendinga. Ömurlegt að það skuli verða Þingeyingar sem eru auðkeyptastir. Öðru vísi mér áður brá! Góð tilvitnunin hjá þér í um Grímsstaðamálið í Sauðárkróksræðu þinni. Er það rétt að þetta séu sömu aðilar - það er Núpó og félagar - sem ráða ferðaiðnaðinum í Tíbet? Kúgunarnýlendunni? Hvílíkur vesaldómur. Gott að lesa á visir.is að þú ert ekki með í ráðum um þennan aumingjaskap!!!
http://visir.is/ogmundur-hefur-ekkert-heyrt-um-samninginn-um-grimsstadi-/article/2012120509795
Sunna Sara
1. Maí 2012
Ræða í Sauðárkrókskirkju 30. 04.12.

Mágkona mín var í sveit í Skagafirði upp úr miðri öldinni sem leið og á þaðan góðar minningar. Ein minning hennar er mér svo aftur eftirminnileg; orðin mín minning. Það var þegar hún fór í sveitina á vorin. Í rútunni voru skagfirsk börn og unglingar á leið heim eftir skólavist utan heimahaganna. Þá gerðist það jafnan að þegar komið var þar í Vatnsskarðinu sem Skagafjörðurinn opnast í öllum sínum mikilfengleik, að rútan brast í grát. Þau voru kominn heim....
1. Maí 2012
Birtist í DV 30.04.12.
...Með sama hætti hafa alþjóðlegir sáttmálar um mannréttindamál bein áhrif á stöðu mannréttindamála hér á landi. Vitundarvakningin sem nú er ýtt úr vör er hluti af fjölþjóðlegu átaki, undir merkjum Evrópuráðsins, um varnir gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Réttindi barna eiga - eins og önnur mannréttindi - að vera óbundin af landamærum. Ekkert barn á að þurfa að lifa við ofbeldi. Það er markmiðið og þangað förum við, skref fyrir skref....
30. Apríl 2012
Hvernig standa mál með Huang og Zhongkun Group? ...
Davíð Jóns
28. Apríl 2012
...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...
27. Apríl 2012

...Allt leiðir þetta hugann að því, að ekki verður allur vandi leystur með lögum. Né reglugerðum. Ef til vill trúum við of mikið á lög og reglur. Allar heilbrigðar manneskjur hafa meðfæddan og innra með sér siðferðisáttavita, sem vísar í rétta átt, burtséð frá lögum og stundum á móti lögunum. Siðferðisbrestur verður ekki lagaður með lagasetningu. Siðferðisleg áttavilla verður aðeins bætt með uppeldi. Gott siðferði er einsog ávöxtur sem þroskast með ræktun og umhyggju...
26. Apríl 2012
Birtist á Smugunni 25.04.12.

...Skýrt er tekið fram að rannsóknarheimildir myndi ekki grunn til eftirlits með hvers kyns grasrótarhópum eða pólitískum samtökum. Heimildirnar eru bundnar við skýrt ákvæði í almennum hegningarlögum þar sem fjallað er um skipulögð brotasamtök en þau eru skilgreind sem félagsskapur þriggja eða fleiri manna sem hefur það að
meginmarkmiði að fremja glæpi með skipulegum hætti, í ávinnignsskyni. Undir þessa skilgreiningu er ekki hægt að fella grasrótarhópa.
Af umsögnum við þingmálin tvö má sjá að víða er vilji til að opna á víðtækar heimildir. Þannig segir Ákærendaféalg Íslands að forvirkar ...
25. Apríl 2012
...Nú stendur kvótaumræðan sem hæst og þessvegna ekki úr vegi að velta því fyrir sér hvort ekki sé hægt að einfalda eitthvað af kerfinu, til hvers eru 2 kerfi króka og aflamark , ástæðan fyrir krókaaflamarkinu var að gera vel við einstaklingsútgerð og lítil fjölskyldufyrirtæki, staðreindin í dag er að stórútgerð og fiskvinnslur eru stærstir í krókakerfinu, en hvers vegna???, er það vegna þess að engir samningar gilda um kaup og kjör?
Snæbjörn Sigurgeirsson
25. Apríl 2012
Birtist í Fréttablaðinu 24.04.12.
Þessa dagana heyrist sagt að annað hvort hafi menn viljað samningaleið eða dómstólaleið í Icesave; verið samningamenn eða dómstólamenn! Og nú hafi þeir sem vildu dómstólaleiðina fengið sínu framgengt! Þannig var þetta náttúrlega ekki. Icesave skuldbindingarnar átti að greiða úr þrotabúi Landsbankans eða eftir atvikum úr Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta. En eins og við vitum varð reyndin sú, að til að skapa traust á eigin fjármálakerfi, greiddu Bretar og Hollendingar upp tap innistæðueigenda innan sinna landamæra. Síðan reyndu bresk og hollensk stjórnvöld að þröngva okkur til samninga um endurgreiðslur með ríflegum vöxtum að viðbættum tilkostnaði þeirra við samningaumleitanir! Rökrétt svar Íslendinga var eftirfarandi...
25. Apríl 2012

...Á okkar tímum væru margir uppteknir af foringjum og forstjórum og að niðurstaðan um sakfellingu eins manns væri ef til vill rökrétt í samhengi tíðarandans að þessu leyti en hvorki væri hún rétt né réttlát. Þessari hugsun vildi ég gjarnan koma á framfæri en aðeins brot af viðtalinu rataði í fréttir sem skiljanlegt er vegna plássleysis og þeirrar staðreyndar að margir höfðu sömu þörf og ég til að tjá sig. En þá er ég svo heppinn að hafa þennan litla miðil minn til að lýsa skoðunum mínum. Eflaust á ég eftir að segja...
22. Apríl 2012
...Ekki er það gæfulegt fyrir Vinstri græna að þurfa að taka afstöðu til styttingar þjóðvegar1 um Húnaþing og Skagafjörð. Eftir að Jóni Bjarnasyni var úthýst úr ríkisstjórn er að vonum illt að ergja kjósendur í hans kjördæmi öllu meira nú um sinn og illt er að mismuna sveitarfélögum í þeim efnum hvar þjóðvegur 1 liggur. Ef vegurinn skal liggja í gegnum Blönduós og Varmahlíð um alla framtíð, þá er það ekki nema sanngirniskrafa að vegurinn verði færður aftur inn í þorpið á Djúpavogi og svo mætti bæta nokkrum kílómetrum við veginn með því að láta hann fara í gegnum Húsavík, um Tjörnes og Öxarfjörð og ná þannig ....
Sigurjón EVG í Hamraborginni
21. Apríl 2012
Við erum búin að sannfrétta að aðstandandinn er í fangelsi. Við vorum að fá óljósar fréttir að hann hefði verið að fá nýjan dóm. Og enn og aftur er dómurinn ekki birtur frekar en í Argentínu sem áður hefur verið vitnað til. Ég stend enn við að hægt er að láta menn "hverfa" á vegum íslenskra stjórnvalda eins og í Argentínu á Pinosétttímanum. Þetta er ekki hægt. Opinber mál eru og eiga að vera opinber.
Aðstandandi taka þrjú
21. Apríl 2012
...Þá hefur varaformaður þinn, hún Kata litla sett stút á plútócrazy munn sinn, sem Lolita og látið tíðindi formanns þíns, Steingríms þöngulskalla, berast út: Fyrir næstu kosningar skal samfylkja júró-stalínistum vg með júró-bíró-krötum til bandalagsgöngunnar miklu til Brussel. Þú átt enga samleið með þessu hyski Ögmundur. Nú eru allra síðustu forvöð fyrir þig að bjarga þinni pólitísku æru.
Jón Jón Jónsson
21. Apríl 2012
Ég les það í Fréttablaðinu að ekkert samráð hafi verið haft við Innanríkisráðuneytið um samninga við kínverska fjárfesta á Grímsstöðum á Fjöllum en að samningar séu engu að síður nær frágengnir af hálfu norðanmanna og með aðkomu annarra ráðuneyta en Innanríkisráðuneytisins. Er þetta eðlilegt?
Jóel A.
20. Apríl 2012
...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur. Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...
20. Apríl 2012

...Stórfróðlegt var að sitja tveggja daga ráðherrafund Evrópurráðsins (fimmtudag og föstudag) í Brighton á Suður-Englandi. Umræðuefnið var Mannréttindadómstóllinn, sem starfar á vegum Evrópuráðsins, hlutverk hans og framtíð. Staðarvalið ræðst af því að Bretar fara nú með formennsku í Evrópuráðinu. Það var því breski dómsmálaráherrann, Kenneth Clarke, sem flutti opnunarræðu á fundinum og sló þá strax tón sem allir höfðu búist við: Líklega væri Evrópudómstóllinn að taka sér of mikið fyrir hendur! Þetta er í samræmi við umkvartanir Breta sem í nokkrum tilvikum hafa þurft að þola að Mannréttindadómstóllinn kveði upp dóma sem eru ekki í samræmi við óskir breskra stjórnvalda. Nýjasta dæmið var reyndar í fréttum á meðan ráðstefnan stóð og snertir mann að nafni ...
18. Apríl 2012
...Vinur minn útlenskur sagðist vera lélegur í stærðfræði, en góður í þríliðu. Hann var búinn að finna það út t.d. að afskriftir heimilanna væru u.þ.b. 200 milljarðar króna gagnvart bönkum, lánasjóðum og skattgreiðendum. Menn endurnýjuðu bílaflotann, tóku tvo vagna í stað eins áður, og allt vildi það búa í nýtísku höllum "á besta stað í bænum". Vinur minn útlendingurinn reiknaði og reiknaði og fékk alltaf sömu útkomuna: Að þjóðin væri klikkuð að halda að hægt væri að taka lífið að láni, og láta aðra borga fyrir lúxusinn. Meðal annarra orða, hvað má gera mörg tvíbreið jarðgöng fyrir barnalegt lánafyllerí heillar kynslóðar? 17 sagði útlendingurinn og brosti. Hann skildi heldur ekkert í því að milljarða afskriftir fyrirtækja Pétra Þríhrossa þess lands skyldi alltaf enda með því að Þríhrossin eignuðust alltaf fyrirtækin aftur...
Ólína
18. Apríl 2012

Birtist í Fréttablaðinu 17.04.12.

Það er okkar mat að Íslendingar hafi verk að vinna í mannréttindamálum, bæði heima og heiman. Í því skyni þarf að efla framlag Íslands á því sviði. Ábendingar erlendis frá tökum við alvarlega, útskýrum okkar málstað ef með þarf og færum hlutina til betri eftir því sem við á. Ísland á í engu að vera eftirbátur annarra þjóða í mannréttindamálum...
16. Apríl 2012
Birtist í helgarblaði DV 13.-15.12.

...Með þessu drögum við skýra línu milli félagasamtaka annars vegar og glæpahópa hins vegar, enda deili ég þeirri skoðum með Andrej Hunko að það er ólíðandi að setja grasrótarsamtök sjálfkrafa undir sama hatt og glæpasamtök, með þeim hætti sem gert hefur verið um alla Evrópu og víðar...
16. Apríl 2012
Það er rangt hjá þér ágæti Ögmundur að Björn Bjarnason hafi ekki verið andstæðingur EES samnings. Sjálfstæðisflokkurinn var upphaflega með þá stefnu að gera ætti sem flesta tvíhliða samninga (einsog Svisslendingar gerðu) frekar en að gera einn stóran samning við ESB. Síðan lúffaði Björn og Sjálfstæðisflokkurinn allur fyrir Jóni Baldvin
í aumri valdafýsn. Þessu má fletta upp...
Hreinn K
15. Apríl 2012

...Þannig væri ekki verið að draga íslenska skattgreiðendur fyrir dómstól vegna framkomu þeirra utan Hins evrópska efnahagssvæðis - aðeins innan þess - ef við ekki hefðum undirgengist EES samninginn. Það er einvörðungu vegna hans sem Bretar og Hollendingar telja sig geta náð á okkur tangarhaldi. Auðvitað er fráleitt að hengja sök vegna þessa á Björn Bjarnason sérstaklega en kokhreysti hans nú veldur því að vert er að minna hann á pólitíska fortíð og aðkomu hans að EES regluverkinu...
15. Apríl 2012
Össur Skarphéðinsson sagði í Silfri Egils að þjóðin hefði viljað Icesave fyrir dóm fyrst hún hafnaði samningi. Þar talar hann ekki fyrir mig. Ég vildi hvorki samning né dómsmál. Ég vildi - og vil enn- að greitt verði til innistæðueigenda Icesave reikninga úr þrotabúinu og úr Tryggingasjónum eftir því sem hann dygði til.
Jóel A.
15. Apríl 2012
Elsku Ögmundur minn, óttalega ertu nú orðinn meðvirkur í helgislepjunni, þegar þú verð hirðtrúðinn þinn og hrunráðherrann Össur. Slefan slitnar bara ekki á milli ykkar, fremur en Villa og Gylfa. Mér væmir orðið við ferfaldri dekadent stjórnsýslunni og opinberu ríkis- og samtryggðu elítunni. Ber hún aldrei ábyrgð á neinu? Bara baktryggð og samtryggð réttindi, en engar skyldur við land og þjóð? Er það nú þín postullega og skinheilaga kveðja til varnar hinni opinberu spillingu, ríkis-verðtryggðri til ofur-lífeyris, að þar skuli hver verja annan ...
Jón Jón Jónsson
15. Apríl 2012

Úr viðtali við Viðskiptablaðið 12.04.12.
„Þar fyrir utan tel ég mjög mikilvægt fyrir okkur gagnvart ESB að leiða málið til lykta sem fyrst. Samkvæmt könnunum er meirihluti landsmanna andvígur aðild og þeim virðist fjölga í stofnanaveldi samfélagsins sem eru á móti aðild, nú síðast Samtök iðnaðarins. Þá eigum við að draga lærdóm af því sem henti Norðmenn á 10. áratugnum. Eftir að hafa setið við samningaborðið í hálft annað ár og eftir að öll aðildarríki ESB höfðu samþykkt umsókn Noregs gengu þeir til kosninga haustið 1994. Ríkisstjórn Noregs hafði sagt já en þjóðin sagði nei. ESB ríkjum fannst þau hafa verið dregin á asnaeyrum...
14. Apríl 2012

... Þegar ég tek undir með þeim sjónarmiðum sem þarna koma fram er ég í reynd að lýsa því yfir að viðbrögð utanríkisráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, sem eru í samræmi við þetta séu rétt... . Hvað hinn lagatæknilega þátt varðar er brugðist við samkvæmt ráðleggingum verjenda Íslands og samdóma mati þess breiða teymis sem þeir styðjast við. Eftir stendur hitt, hvernig Íslendingar ætli að bregðast við þeirri pólitísku ákvörðun Evrópusabandsins að blanda sér í málaferlin. Í mínum huga er verkefnið augljóst...
14. Apríl 2012
...Eru stóru orðin þín og Steingríms um ESB aðildarviðræðurnar nú bara til "heimabrúks" eins og fyrri daginn, svona til þess eins að friða næsta flokksráðsfund VG og láta þar klappa fyrir ykkur einn ganginn enn ! Ég segi við ykkur ef þið látið ekki kné fylgja kviði núna og setjið Samfylkingunni stólinn fyrir dyrnar varðandi þessa ESB umsókn þá er úti um VG sem raunverulegt stjórnmálaafl í íslenskum þjóðmálum. Krafa ykkur hlýtur að vera sú að hlé verði gert á aðildarviðræðunum nú þegar. Helstu ástæður eru þessar...
Gunnlaugur Ingvarsson
14. Apríl 2012
...Þú sneiðir fram hjá því að rökræða efnislega um gagnrýni mína og gerir lítið úr henni, en reynir persónulega að bera af þér sakir um þjónkun og undirlægjuhátt við esb valdið ! Ekki stórmennskulegt !
Gunnlaugur Ingvarsson
12. Apríl 2012
Fyrir þremur vikum mætti í Silfur Egils Frosti Sigurjónsson og talaði þar um hvernig bankarnir auka við gjaldeyrisforða þjóðarinnar (prenta rafpeninga) og hirða af því vexti. Það vekur spurningar hvernig þessar stofnir hafa getað vaxið svo mjög síðustu ár, af hverju virðist enginn þjóð geta komið böndum á verðbólgu? Mér er sagt að iðnaðarbankinn hafi verið stofnaður í kjallara á sjöta áratug seinustu aldar, í dag á Íslandsbanki nánast undantekningar laust eitt af þremur veglegustu húsum í hverju einasta bæjarfélagi á landinu og skilar erlendum eigendum sínum ...
Daníel
12. Apríl 2012
Það er þitt að slíta þessu Ögmundur og bæta þannig fyrir 3ja ára gamla misgjörð.
G.B.
12. Apríl 2012
Þessi afstaða ESB til Íslendinga er móðgun við okkur öll sem eru með aðild og á móti aðild. Á meðan svo er krefst ég þess af ráðherrum í ríkisstjórn Íslands að þeir fyrir Íslands hönd dragi til baka umsóknina eins og ástandið er núna og geri það á næsta ríkisstjórnarfundi. Þannig sýnir íslenska þjóðin afstöðu sína til ESB og gerði það reyndar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fræg er orðin úti um allan heim. Ögmundur, þú berð tillöguna upp á næsta ríkisstjórnarfundi fyrir hönd okkar sem ....
Guðbrandur
12. Apríl 2012
Veit eiginlega ekki til hvers ég er eiginlega að reyna að skrifa þér vegna þess að ég er fyrir löngu alveg búin að missa alla trú á flokknum þínum og næstum alveg á þér sjálfum líka, þrátt fyrir allan látbragðsleikinn og sýndarmennskuna sem þú sýnir enn með tilþrifum af og til og maður er reyndar líka löngu farin að sjá í gegnum og því hættur að trúa. Lestu það sem ég hef kommentað á "Vinstri Vaktinni gegn ESB" á Mbl.is - og á bloggi mínu á sama bloggi "gunnlauguri.is" Ef við færum þetta yfir á skákina þá á VG forystan nú leik í skákinni og...
Gunnlaugur Ingvarsson
11. Apríl 2012

Framkvæmdastjórn ESB ryðst nú inn í málaferlin gegn Íslendingum út af Icesave. Þetta mun vera einsdæmi. Okkur þótti nóg um þegar Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, ákvað að draga okkur fyrir dóm til að reyna að gera íslenska skattgreiðendur ábyrga fyrir innlánareikningum Icesave. Nokkuð sem margir bjuggust við að Bretar eða Hollendingar kynnu að gera en varla Noregur og Liechtenstein, sem ásamt okkur eiga aðild að ESA.... En hvað vakir fyrir Evrópusambandinu? Er ESB ef til vill að reyna að slíta viðræðunum við Ísland? Eða er það kannski þannig - sem ég held að sé líklegra - að því aðeins vilji ESB okkur inn í sambandið að...
9. Apríl 2012

....
Þorsteini Jónssyni tókst það ætlunarverk sitt með miklum ágætum. Samspil manns og náttúru, vangaveltur hins trúaða og trúlausa. Allt var á sínum stað þar sem hver söng með sínu nefi en útkoman engu að síður merkilega samstæð þegar upp var gert. Frábær myndataka, listilega vel gerðar klippingar, allt skilaði þetta sér inn í vitundina sem heildstæður veruleiki. Kannski var hinn trúlausi trúaðastur af öllum - á sinn hátt. Ekki var ég frá því. Á eftir sýningunni fór fram umræða á milli höfundar myndarinnar og áhorfenda og undir lokin á henni var presturinn einnig mættur til leiks, nýlokinn við prestverk dagsins. Einhverjir þeirra sem fram komu í myndinni voru...
7. Apríl 2012
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...
7. Apríl 2012
...Þar er sagt frá ævintýralegri auðsöfnun Smaherjafrændanna og einnig hvernig Þorsteinn Vilhelmsson gekk út úr fyrirtækinu með 3 milljarða. Þess má geta að hann gerðist viðskiptafélagi Margeirs Péturssonar en MP var stærsti hluthafi Jarðborana en færði fjármuni sína sem hann hefur væntanlega fengið frá Samherja gegnum ÞV og ekki líður á löngu að almenningasfyrirtækið Atorka yfirtekur Jarðboranir. Það var síðar gleypt af Geysir Green Energy sem kunnur blekkingameistari átti veg og vanda af. Þess má geta að í sama tölublaði Dags er sagt frá því að Alþingi sé leigutaki Samherja (bls.2) en skrifstofubygging sú sem ýmsir þingmenn hafa skrifstofur við Austurstræti var þá í eigu Samherja og er kannski enn. Svo tala þessir útgerðarmenn um ofsóknir á...
Guðjón Jensson
7. Apríl 2012
Þakka svarið. Aðstandandinn er "fundinn" án aðstoðar opinberra aðila. Ég frétti úr undirheimum að hann væri í fangelsi. Linkarnir sem þú sendir eru ekki fyrir almenning heldur innskráða. Alla dóma á að birta nema hugsanlega dóma fyrir landráð og verði það metið í hvert skipti. Það er gott að búa á Íslandi og vera misyndismaður, því að vera misyndismaður er trúnaðarmál. Regla sem við fengum frá homo erectus: Nú brýtur einhver af sér og skal brot hans ...
Aðstandandi
7. Apríl 2012

...Þessi predikun held ég að hljóti að verða þeim sem á hlýddu eftirminninleg. Hún er vekjandi ákall til samtímans en í senn er hún trúarleg og heimspekileg greining þar sem predikarinn sækir liðstyrk til andans fólks, lífs og liðins, ljóðskálda og rithöfunda. Tekist er á við grunvallarspurningar í mannlegri vitund, hvernig það sem virðist vera mótsögn kunni þrátt fyrir allt að mynda eina heild...Ég hvet alla til að lesa predikun séra Gunnars Kristjánssonar, sem ég birti hér að neðan, og gildir þá einu hvort lesandinn er kristinnar trúar, annarrar trúar eða trúlaus, enda kjarninn í boðskap predikunarinnar að sýna fram á að hann - kjarninn - snýst
„hvorki um stofnun né bókstaf." ...Margt er þarna vel sagt og á erindi til okkar samtíma, hvort sem það er um frelsið og hvað geri manninn frjálsan, virðingu manneskjunnar, og þá lærdóma sem draga þarf af reynslu mannins því
„sá sem horfist ekki í augu við fortíðina neyðist til að endurtaka hana"...
6. Apríl 2012
Birtist í Fréttablaðinu 05.04.12.

...Ef fyrirtæki verða uppvís að því að hlunnfara samfélag sitt þá hlýtur samfélagið að finna heiðarlegri aðila til að fara með fjöregg sín! Í mínum huga er þetta augljóst. En hvers vegna þessi hörðu viðbrögð? Heiðarlegur útgerðarmaður til margra ára sagði við mig að ástæðan væri sú að allir þeir sem gerðust sekir um skattamisferli og brot á gjaldeyrislögum, hækkuðu fisk í hafi til að hlunnfara sjómenn og samfélag eða færu á annan hátt framhjá lögum gerðu sér grein fyrir þeirri ógn sem þeim stafaði af öllum hugmyndum sem byggðust á þeirri staðreynd að kvóti er ekki eign; að hægt er að svipta menn honum gangi þeir á rétt hins eiginlega eiganda, íslensku þjóðarinnar....
4. Apríl 2012
...Ég fór niður í dóm og bað um afrit dómsins í afgreiðslunni. Svar: Nei. Fór til ritara dómarans og bað um afrit. Svar: Nei. Fór til dómarans. Svar: Nei. Skýring dómarans: "Vildir þú að allir gætu fengið afrit af dómi ef þú gerðir eitthvað af þér"?. Ég varð að gjalti, málið var opinbert mál og þetta er í andstöðu við 1200 ára dómsögu landsins.
Þessi aðstandandi minn er nú horfinn. Ég hef ekki neina vissu um hvort hann var dæmdur í fangelsi. Fyrirspurnum til Fangelsismálastofnunar ríkisins er svarað: "Við megum ekkert gefa upp". Fyrirspurnir til lögreglu eru: "Við getum ekkert gefið upp". Mér kemur ekki til hugar að ...
Aðstandandi
4. Apríl 2012

...Bogesen er aldrei langt undan. Nema hvað núna er hann ekki bara með tökin á Óseyri við Axlarfjörð eins og forðum heldur liggja valdaþræðirnir suður til Evrópu og víðar um heim. En hvaðan var auður Bogesens sprottinn? Um það og siðferðilega ábyrgð auðs og valda fjallaði meistarasmíð Halldórs Laxnes, Salka Valka, á sínum tíma. Viðfangsefnið er sígilt. Það eru eigendur Samherja að sýna fram á með ummælum sínum og athöfnum þessa dagana. Sama gildir um LÍÚ og Mogga...
3. Apríl 2012
Hvetjum Öryrkjabandalag Íslands til að halda RISABARÁTTUFUND í LAUGARDALSHÖLL 1. maí 2012 Hvetjum Reykjavíkurdeild Landsambands Eldri Borgara til að halda RISABARÁTTUFUND í LAUGARDALSHÖLL 1. maí 2012.
Helga Björk Magn. Grétudóttir
3. Apríl 2012
Tillaga þín um sviptingu veiðileyfa sem refsing við brot á meðferð þeirra, sérstaklega brot á gjaldeyrislögum eða samkeppnislögum við sölu á kvóta, er það sem næst hefur komið að draga úr eignarrétti á kvóta enda eru LÍÚ menn og fulltrúar þeirra áhyggjufullir.
Hreinn K
2. Apríl 2012

...Þegar nú stendur til að styrkja lagagrunn undir því, sem reyndar segir í núverandi lögum að þjóðin eigi sjávarauðlindina, og jafnframt reisa skorður við braski, þá heitir það þjóðnýting! Ég leyfi mér að efast um að heiðvirðum mönnum á meðal útgerðarmanna hugnist málflutnnigur af þessu tagi. Í öðru lagi er umhugsunarvert að blaða í pólitískri orðabók Illuga Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Þegar lagt er til að einstaklingar og fyrirtæki sem treyst er fyrir því að höndla með fjöregg þjóðarinnar - sjávaruaðlindina - skuli missa slíka heimild úr hendi ...
2. Apríl 2012

.... Skylt þessu er atriði sem einnig kom til umræðu í þættinum í gær, var að nýta beri ákvæði í lögum um öfuga sönnunarbyrði varðandi eignir einstaklinga sem uppvísir hafa orðið af glæpum í ávinningsskyni. Í stað þess að láta sitja við það eitt að dæma slíka aðila til sektar eða fangelsisvistar verði eignir þeirra gerðar upptækar nema þeir geti sýnt fram á að þeir hafi aflað þeirra með lögmætum hætti. Þetta er farið að gera í sífellt ríkari mæli víðs vegar um heim og mikilvægt að mínu mati að við gerum slíkt hið sama. Þannig gangi einstaklingur sem ...
1. Apríl 2012
Mér fannst aprílgabb RÚV gott og takast vel. Þingkonurnar Guðfríður Lilja og Ólína þorvarðar sýndu húmor og frjálslyndi að taka þátt í glensinu. Auðvitað vita allir að ekki stendur til í að fara í Vaðlaheiðargöng eftir allar skýrslurnar um að framkvæmdin gangi ekki með vegtollum einum. Það var forsenda framkvæmdarinnar. En grínið var skemmtilegt. Takk RÚV. Takk ...
Sunna Sara
31. Mars 2012
...Þetta er hárrétt lýsing hjá "spámanninum" Steingrími, en undarlegt er að hann sjái það ekki sjálfur, að öll þessi orð gilda einnig um ríkisstjórn Jóhönnu, Össurar og ... haltu þér nú fast Ögmundur minn ... hans sjálfs. Er ekki kominn tími til að þessum ósköpum linni? Lífverðir og alles, en varla uber alles? Ég trúi ekki öðru en að svo vænn drengur sem þú ert, amk. innvið beinið Ögmundur minn, sért mér sammála að nú sé tími til kominn að virkja lýðræðið og boða til kosninga. Það sagði amk. foringi þinn, sem hangir þó enn á beininu sem hundur á valdasjúku roði.
Jón Jón Jónsson
31. Mars 2012
Hlustaði á umræðuna um Schengen á þingi nýlega og það er hárrétt sem þar kom fram að hlutnirnir breytast hratt. Frakklandsforseti hótar að ganga úr þessu samstarfi og Bretar neita að hlusta á svona vitleysu og segjast ætla að ráða því sjálfir hverjir heimsæki landið og halda glæpamönnum frá. Þetta er fullgilt ESB ríki en menn þar á bæ leggja ekki í slag við þá vegna allt annarra hagsmuna nefnilega á hernaðarsviðum. Dómsmálaráðherra getur tekið hér upp vegabréfaskyldu ...
Þór Gunnlaugsson
28. Mars 2012
Birtist í Mbl. 27.03.12
Guðmundur Karl Jónsson, farandverkamaður, skrifar grein í Morgunblaðið 24. mars undir fyrirsögninni, „Árás Ögmundar á Vestfirðinga". Í greininni segir Guðmundur Karl að ég vilji fara svokallaða Hálsaleið á Vestfjarðavegi 60, þvert á vilja heimamanna. Vísar hann í fjölmenna fundi á Vestfjörðum þar sem ég kynnti þessa hugmynd sl. sumar, en svo illa hafi henni verið tekið að „600 manns gengu út af fundinum sem ráherrann hélt vestur á Patreksfirði...
27. Mars 2012

Í vikunni sem leið efndi Innanríkisráðuneytið til umræðu um happdrætti og fjárhættuspil í tilefni af nýútgefnu riti um könnun á spilahegðum Íslendinga. Í formála ritsins sagði ég í fyrirsögn: „
Velferð spilafíkla verði okkar leiðarljós." Í þessum orðum er fólginn kjarni og inntak þeirrar vinnu sem nú fer fram á vegum Innanríkisráðuneytisins við endurskoðun á lögum og reglugerðum sem gilda um starfsemi sem stuðlar að spilafíkn og er þar með háskaleg þúsundum Íslendinga. Formálinn að ritinu fylgir hér...
25. Mars 2012

...Það er grundvallaratriði að rétturinn til ákvarðanatöku er einstaklinganna í þjóðfélaginu. Þótt þeir framselji rétt sinnn til ákvarðanatöku tímabundið fulltrúum á þingi eða í sveitarstjórnum eiga þeir hvenær sem er að geta kallað þennan rétt sinn til baka - algerlega óháð því hvernig þeir hyggjast nýta sér hann. Síðan má taka ýmis dæmi um hvað takmörkun á kosningaréttinum samkvæmt tillögum Stjórnlagaráðs myndi hafa í för með sér. Undir lokin...
25. Mars 2012
Davíð Oddsson segir í viðtali í Verslunaskólablaðinu að hann hafi barist fyrir setuverkfalli í MR sem þú hafir beitt þér gegn sem „fulltrúi kerfisins". Svona skipast veður í lofti segir hann því nú sért þú til vinstri en hann til hægri og má skilja að eðli máls samkvæmt hefðir þú átt að vera verkfallsmaður. Er þetta rétt Ögmundur? Sjá ...
Haffi
18. Mars 2012
...Það er við stjórnmálamenn að sakast að glæpagengi fóru að skjóta rótum hvert á fætur öðru í landinu eftir að stjórnvöld fóru að fjársvelta lögregluna og hlustuðu ekki á kröfur þeirra og viðvaranir. Það á að nota skattpeninga í landvarnir og lögreglu en ekki eyða þeim í Brussel-fáráðið og ICESAVE.
Og hvað verður langt í að þið dragið Evrópusambands-umsóknina til baka, umsóknina sem við, þjóðin vorum aldrei spurð um og hátt í 70% okkar eru andvíg og vilja ekki? Og hvað verður langt í að þið lokið íhlutunarstofunni sem sett var upp fyrir 1 stjórnmálaflokk í okkar ´lýðræðisríki´ til að ...
Elle
17. Mars 2012
...Hverju vill hæstvirtur dómsmálaráðherra svara þessum alvarlegu ásökunum? Ég, sem óbreyttur og heiðarlegur villiköttur krefst greinargóðra svara frá þér Ögmundur Jónasson. Gilda hér bara landslög fyrir aumingjana, Les miserables, en simmsalabimm ráðherrar megi fimbulfamba og veðsetja þjóðina beinustu leið til helvítis, án þess að dómsmálaráðherrann rumski í rekkjutjöldunum og plussi hirðarinnar?
Villkötturinn
17. Mars 2012
...Það þarf að drífa í því að byggja nýtt fangelsi og halda áfram að leggja áherslu á að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Við viljum ekki sjá þessa óværu hér á landi og verðum að sporna við fótum. Við höfum ennþá tækifæri og tíma til að koma í veg fyrir þetta.
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
17. Mars 2012
...Þarf lögreglan engar heimildir lengur - og má fólk ekki sjá þær þegar þær eru fyrir hendi? Sérð þú ekkert athugavert við að lögreglan sé að berhátta fólk - og það á sama tíma og hún neitar að reka grunaða barnaníðinga? Í Guðanna bænum stoppaðu þetta rugl og opnaðu umræðuna um óháð innra eftirliti. Mundu að þú ert æðsti yfirmaður lögreglunnar - og það ert ÞÚ sem ert ábyrgur fyrir þessum grófu mannréttindarbrotum. Kær kveðja -
Símon
16. Mars 2012
Þakka þér Ögmundur fyrir greinina í Fréttablaðinu í vikunni. Þú virðist vera eini pólitíkusinn sem heldur uppi vörnum fyrir okkur sem viljum ekki selja ( gefa) landið útlendingum. Samt hef ég heyrt að margir og þá innan ESB hafi keypt hér jarðir út um allt. Er það rétt ?
Edda.
16. Mars 2012
...mér finnst viðhorf þín til útlendinga, hvort sem það eru Kínverjar, Rússar eða fólk frá meginlandi Evrópu, vera komin á ískýggilegt stig, farin að nálgast hreina andúð. Hugsaðu þinn gang aðeins...
Gunnar (er sjálfur af erlendum uppruna).
16. Mars 2012

...Ég lagði áherslu á mikilvægi samstarfs Íslands og Grænlands. Tiltók einnig Færeyjar, Skotland og Noreg, ríkin á Norðurslóðum í okkar heimshluta. Mikilvægt væri að þessi lönd, sem öll standa utan Evrópusambandsins, að Skotlandi undanskildu, huguðu sameiginlega að hagsmunum sínum og horfðu norður á bóginn. Í ljós kom að Brussel-valdið hefur séð allt þetta fyrir og er farið að veita ríkulegum styrkjum til Grænlands, rúmlega átta milljörðum árlega, að því er okkur var tjáð. Við Grænlendinga ræddi ég líka um mikilvægi þess að halda vel utan um auðlindirnar. Það þyrftu...
14. Mars 2012
Birtist í Fréttablaðinu 13.03.12.

Kínversk fjárfestingarfyrirtæki vildu nýlega kaupa Grímsstaði á Fjöllum eins og flestir vita. Um var að ræða þrjú hundruð ferkílómetra land. Hugmyndin var að reisa hótel og ferðamannabústaði. Jafnframt var látið fylgja með að áhugi væri á því að styrkja flugbraut sem þarna væri að finna. Kaupverðið var milljarður. Kínverjar eru ekki einir í landvinningahugleiðingum. Eftirfarandi fréttafrásögn var á vefmiðlinum Pressunni í vikunni sem leið: „Fjórir rússneskir auðjöfrar fóru í viðamikla skoðunarferð á þyrlu ...
14. Mars 2012
Til hamingju með nýju lögin um gjaldeyrishöft. Það er ekkert annað en mismunun að greiða Bretum og Hollendingum í Evrum og Pundum úr þrotabúi Landsbanka en innlendum kröfuhöfum í ...
Hreinn K
10. Mars 2012

Áhugavert er að fylgjast með framvindu Landsdómsmáls. Og þá ekki síst fréttaflutningi og vangaveltum í fjölmiðlum. Spurt er hvort, ákærður, Geir H. Haarde, hefði ekki getað gripið til ráðstafana til að minnka bankana eða koma þeim úr landi. Þetta þykir nú sjálfsögð spurning. Eða öllu heldur ákæra, ákæra í sakamáli. Hróðugir henda fjölmiðlungar sumir gaman að því að á fjölum Þjóðleikshússins sé nú verið að sýna Vesalingana, Les Miserables, eftir Hugo. Það sé vel við hæfi því í næsta húsi sé Landsdómur að störfum. En er það ekki rétt munað að það hafi verið ...
10. Mars 2012
...Allar prímadonnurnar syngja sitt sólónúmer og koma því að í þakklætisskyni að Geir sé nú ágætur. Það sem kemur fram þarna er skrumskæld útgáfa af því sem þegar var vitað. Framsetning rannsóknarskýrslu Alþingis vísar í gögn og er samsett með einhverri greiningu. Þarna romsar fólk frekar frjálslega og það sem límir frásögnina saman er persónuleg túlkun og sjálfsréttlæting. Það var þekkt hvar von var á afstöðumun og skoðanaágreiningi. Í þessari útgáfu sögunnar sitja menn enn fastar við sinn keip og eru forhertari en áður eftir að hafa fengið tíma til umþóttunar. Þegar allt er tekið saman eru þetta eins og flær á feldi sem allar hamast, en það er erfitt að finna því starfi göfugan..
Árni V.
10. Mars 2012
Fyrrum bæjarstjóra í Kópavogi tryggðar um 20 milljónir við það að vera sagt upp, börn sem voru lamin, lokuð inni, foreldralaus, látin drepa hænur 4 ára gömul, þvinguð til vinnu, og jafnvel misnotuð kynferðislega - boðnar 2.3 milljónir af ríkinu, - jafnvel þrátt fyrir það að hafa verið í þeim aðstæðum í áraraðir á vegum barnaverndaryfirvalda. - Formaður þessarar nefndar sem um þetta sér Guðrún Ögmundsdóttir hefur m.a. ...
Steinar Immanúel Sörensson
10. Mars 2012
...Þegar að fyrirséðu hruni kom 2008 hafði Alþingi lengi staðið sem álfur á hól. Var raunar mest í leyfi frá störfum frá ársbyrjun 2008 til hrundags. Svonefnd ríkisstjórn var í slökun vegna stöðu, sem hún hvorki þekkti, né bar að þekkja, að áliti kreddufólks. Efnahgaslífið var sett í sjálfstýringu og bein stjórnaríhlutun þá talin dónaskapur við frelsið. Þó leyfðist m.a. SÍ að splæsa nokkrum milljarðahundruðum í frjálsa bankakerfið. Einn kreddukall af mörgum er nú til athugunar fyrir dómi. Honum er gefið að sök að hafa veitt markaðsöflum það frelsi, sem boðuð kreddutrú hans lagði grunn að. Saklaus trúði hann á glæpakerfi sem brást. Hann veitti ríkisstjórn forstöðu, sem löglega hafði gefið frá sér stjórnun. Þessi maður er ....
10. Mars 2012
...Hvernig er það, á meðan þú hefur ahyggjur af uppgangi manna í "ógnandi fatnaði" á mótorhjólamönnum, þá ganga hérna um hundruðir manna í svörtum og ógnandi einkennisfatnaði og berja og kúga og hjalpa fjarmögnunarfyrirtækjum að stela bílum m.a. Ja er að tala um lögregluna sem ekkert eftirlit er með, þetta þekkist hvergi i lýðræðislöndum minn kæri og þetta er raunveruleg vá, þeir komast upp með allt, jafnvel þó þeir seu ...
Jón Benedikt Hólm
10. Mars 2012
...Þeir hlógu sig máttlausa viðhlægjendur valdastéttarinnar, að þeim sem settu spurningar við rekstur banka 2006 og 2007. Þá vildu sumir senda þessar okurbúllur úr landi og byggja upp nýtt bankakerfi. Þetta þarf að rifja upp endrum og sinnum og svo taki sig ekki upp gamalt valdastéttarbros, en ég varpa hérna áhugaverðugu spurningum. "Össur Skarphéðinsson, fv. iðnaðarráðherra, sagði við skýrslugjöf fyrir Landsdómi fyrir stundu að Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, hefði komið inn á ríkisstjórnarfund skömmu fyrir hrunið og lýst þeirri skoðun sinni að hópar í tveim bönkum hefðu gerst sekir um landráð." Þetta segir í frétt í...
Ólína
8. Mars 2012
Vil þakka þér vel valin orð og skynsamleg í ávarpi á morgunverðarfundi um trúfrelsi sem ég las hér á síðunni. Sjálf er ég þeirrar skoðunar að Þjóðkirkja sé þokkalegur ventill á öfgahópa í trúarefnum og að það sé líklegt að þjóðin (amk80%) vilji kristin sið sem ,rótarkerfi sitt áfram. ,,Trúfrelsi" er vandmeðfarið, t.d. þegar menn komast upp með hatursáróður vegna jákvæðs (frelsi til) trúfrelsis og í krafti trúarlærdóma (dogma).
Dómstólar hafa lýst sig vanmegnuga gagnvart ,,hatursáróðri" vegna trúfrelsis. Þannig komst danskur prestur upp með hatursáróður af því hann ....
Hulda Guðmundsdóttir
8. Mars 2012

... Einn glæpahópanna, sem hefur verið hvað mest til umræðu, notar mótorhjól sem eitt ef sínum kennitáknum. En þótt þessir menn séu á mótorhjólum er ekki þar með sagt að allt mótorhjólafólk sé af sama sauðahúsi. Þvert á móti þá hefur fjöldi fólks ástríðufullan áhuga á mótorhjólum og hefur bundist samtökum við sína líka um þetta áhugamál. Þannig eru margir mótorhjólaklúbbar í landinu. Þeir sem fylla þeirra raðir vilja ekkert af hrottum og glæpamönnum vita og svíður sárt að vera ruglað saman við misindismenn. Mér var sagt af einum slíkum klúbbi sem var að...
7. Mars 2012
Hrafn Magnússon skrifar grein í Fréttablaðið þar sem hann mótmælir einhverju sem þú hefur sagt um að lífeyrissjóðirnir eigi að lána til verka sem gagnast samfélaginu. Hrafn óttast mjög tvö orð í þínum málflutningi en þú munt hafa vísað til þess að lífeyrissjóðir skuli lána til ríkisins á "hagstæðum kjörum". Nú myndi ég telja að ríkið ætti ávallt að fá hagstæð kjör. Ríkisábyrgð þykir venjulega eftirsóknarverð. Í ljósi reynslunnar ættu menn að minnsta kosti að hafa í huga að hæsta endurgjald á markaði getur verið boðið af mönnum með takmarkaða burði til að standa við kostakjörin. En þá getur maður spurt sig af hverju gamlir lífeyrissjóðamenn eru svona...
Heimir
7. Mars 2012

Ávarpsorð á morgunfundi innanríkisráðuneytisins um trúfrelsi
Woody Allen sagði einhvern tíman:
"Ég hef alltaf vitað að það er eitthvað þarna úti sem vakir yfir okkur. Því miður reyndist það vera ríkisstjórnin."Það eru auðvitað ekki allir sem trúa á ríkisstjórnina og það er sem betur fer leyfilegt, ekkert síður en að leyfilegt er að greina á um hve gáfulegt það yfirleitt er að trúa eða trúa ekki á ríkisstjórnir. Við vitum heldur ekki hvort það er betra að eyða lífi sínu í að trúa á Guð og komast svo að því í lokin að hann er ekki til, eða hitt að eyða lífi sínu í að trúa á Guð og komast svo að því að Hann er til. En hvað er að trúa á Guð? Er fullyrðingin eða spurningin kannski vitlaust orðuð? Gæti verið að ...
5. Mars 2012
Mér er nú hugsað til þess er sagt var frá því að stofnfjárfestar í Byr sparisjóði fyrir norðan og suður með sjó hefðu fengið lán sín felld niður, sem þeir tóku til að auka eignir sínar í Sparisjóðunum og fengu til þess allt að hundrað milljónir og hver sem vildi hjá fjármálastofnunum eins og t.d. Íslandsbanka, Landsbanka og Byr. Öll þessi lán voru tekin í algjöru gróðaskyni og græðgi í meiri auð og völd. Ég verð nú að viðurkenna það að mér féllust alveg hendur þegar ég heyrði þetta og sá í fjölmiðlum. Fjárfestar sögðu, nú erum við glaðir, nú er miklu fargi af okkur létt, fargi sem var alveg að sliga okkur og okkar fjölskyldur, við hefðum ...
4. Mars 2012
...Hvenær geta íbúar þessa lands átt von á nýja Íslandi en nú eru liðin um þrjú ár frá hruni. Eitt af því mikilsvægasta sem þarf að gera er að afnema bankaleynd. Tel það ekki þjóna almannahag að vera með bankaleynd, held fáir telji það æskilegt að vera með þingmenn, lögmenn eða fréttamenn sem litaðir eru af mútum. Hvernig hugnast þér að koma með ...
Þór
2. Mars 2012
...Í Visir 28-2-2012 las ég: Vilja brenna sorp i Helguvik.Tilboð fra Bandarisku fyrirtæki fyrir 10 milljónir dala.Triumvera Environmental áður undir Chemical Solvent Distillers vill flytja inaðarurgang fra spitölum og öðru yfir hafið til okkar fagra lands og brenna þar úrgang. Hvað er að ske hérna? Ekki eru það Kinverjarnir núna en mér líst illa a þetta. Hérna er um að ræða flutning á ...
Þórunn
2. Mars 2012
Það má segja að heitt sé í kolunum vegna ESB og ekki burðugar fréttir um líðan fólks á þeim slóðum en þar er niðurskurðurinn gríðarlegur 100 faldur á sumum sviðum miðað við hér á landi sem betur fer. Hugur minn er hjá grískum fjölskyldum öldruðum og sjúkum sem nú munu fá verulega skertar greiðslur svo og atvinnulausir Þó er eitt lykilatriði sem ég hef engan heyrt ræða um hvorki þingmenn eða sjálfskipaða ESB sinna eða ekki og það er hver munu kjör almennings verða komi til inngöngu? Rætt er um ...
Þór Gunnlaugsson
2. Mars 2012
...Ég bið þig að koma fram í fjölmiðlum og verja Gunnar Þ Andersen og svara þeim sem vilja koma honum í burtu fullu hálsi. Ef að Gunnar Þ Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins fer frá myndi það setja mjög svo slæmt fordæmi. Svo skora ég á þig að gera Vörslusviptingu-ehf lífsins ómögulegt að starfa...
Jón Þ
29. Febrúar 2012
Aðlögun Íslands að ESB er nú komin á fulla ferð og áróðursskrifstofur með agenta fjármagnaðar af Alríkis-skrifstofu EUSSR. 270 milljónir króna streyma nú til skrifstofu Landstengiliðs til að annast samræmingu, stjórn og eftirlit með framkvæmd IPA-aðlögunar (kölluð aðstoð af áróðursbatteríinu). 240 milljónir króna streyma nú til þýðenda Brussel-biblíunnar og til stofnunar nýrrar námsbrautar fyrir ráðstefnutúlka við Há(ð)skóla Íslands (en sá skóli sekkur dýpra og dýpra í lágkúru þeirra sem sponsorera þar æ fleiri námsbrautir). 132 milljónir króna streyma nú til Hagstofunnar til að...
Gapandiundrandi
27. Febrúar 2012

:...
„Ég veit hins vegar að þetta er málamiðlun á milli tveggja póla. Þetta er millileið á milli þeirra sem vilja að Alþingi samþykki að slíta viðræðunum þegar í stað - þennan rétt áskildu menn sér við atkvæðagreiðsluna vorið 2009 - og hinna sem vilja klára endanlegan samning jafnvel þótt það kæmi til með að dragast einhver ár eftir því hvernig lægi á mönnum í Reykjavík og Brussel. Um þessar tvær leiðir verður aldrei breið sátt. Ég tel að leiða eigi viðræðurnar til efnislegrar niðurstöðu eftir því sem kostur er innan þess tímaramma sem við ákveðum. Síðan kjósum við." Þetta er bútur úr viðtali sem mbl.is átti við mig í gær en úrdráttur biritst síðan í Morgunblaðinu í dag. Þar var líka að finna viðbrögð Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, sem ...
27. Febrúar 2012

... Einhverja heyri ég segja að of seint sé í rassinn gripið nú að tímasetja lok viðræðna. Þetta er fráleitur málflutningur. Vissulega má færa rök fyrir því að heppilegra hefði verið að tímasetja lok viðræðana á fyrra stigi, ekki síst í ljósi framvindunnar, en fyrrir þessu hef ég hins vegar talað síðan haustið 2010. En hitt skulu menn hafa í huga að aldrei er of seint að endurmeta stöðuna ef við teljum það þjóna hagsmunum Íslands...
26. Febrúar 2012
Sæll Ögmundur, leikur forvitni á því að vita hvort þetta bréf frá utanríkismálanefnd Evrópusambandsins sé opinbert plagg og því t.d. aðgengilegt á netinu?...
Hans
25. Febrúar 2012
Fréttir af flokksráðsfundi VG þar sem gefin er línan fyrir atkvæðagreiðslu í Landsdómsmálinu segir allt sem segja þarf: Þetta eru pólitísk réttarhöld! Hafi einhver velkst í vafa um það þá hlýtur sá vafi að vera úr sögunni. Dómgreinadarleysið ríður greinilega ekki við ....
Jóhannes Gr. Jónsson
25. Febrúar 2012

...Lagt er til að viðræðum við ESB verði hraðað. Dagsetning ákveðin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í síðasta lagi undir lok þessa kjörtímabils. Samninganefndum okkar og ESB verði gerð grein fyrir því að þetta afmarki þann tímaramma sem þær hafi til að fá efnislegar niðurstöður í þeim málaflokkum sem helst varða okkar hag. Verði niðurstaðan sú að þjóðin hafni því að ganga í Evrópusambandið á þeim efnislegu forsendum sem þá liggja fyrir er sjálfhætt að ganga frá aðildarsamningi. Ef þjóðin hins vegar er hlynnt inngöngu yrði það verk klárað....
22. Febrúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu 21.02.12.

...En svo að það sé sagt alveg skýrt: Nýtt kerfi á ekki að byggja á afturvirkri skerðingu fyrri kerfa. Um þau samdi fólk og verður að geta gengið að þeim rétti vísum sem það iðulega fórnaði kauphækkunum til að öðlast. Það breytir því ekki að lífeyriskerfin verða að koma til endurksoðunar inn í framtíðina og ber að fagna þeirri umræðu sem nú er hafin í þessa veru...
21. Febrúar 2012
...Mér finnst eftirfarandi línur í Vígslóða eftir Stephan G. Stephansson eiga vel við ástandið í Grikklandi núna:
Heimurinn sagður ofbirgur af öllu
öðru en gjaldi, sveltan stæði af nægtum.
Lánardrottnar heimsins hafa vitað,
hvað bjó undir stjórnarkápum ríkja:
Stærra veð í fjárhagsþrælkun fólksins
festa mætti, taka í skuldagísling
ófædd börn, til aldurloka jarðar
erfiðandi að gjalda vöxtu af lánum....
Jón Torfason
21. Febrúar 2012
Það verður að krefjast þess af stjórnvöldum strax að allar aðgerðir gegn heimilunum s.s. fjárnám, vörslusviptingar og gjaldþrotabeiðnir verði stöðvarðar undir eins. Tjónið sem stjórnvöld hafa valdið með þvi að gera þetta ekki nú þegar er gríðarlegt, og ekki eftir neinu að bíða. Þetta er algjörlega nauðsynlegt þar til það liggur fyrir 100% hvernig lánamálum skal háttað hér á landi, bæði varðandi ólöleg gengistryggð lán og verðtryggð íslensk lán. - sé Ríkisstjórnin ekki til í þetta undir eins ber henni að víkja og það strax.
Steinar Immanúel Sörensson
21. Febrúar 2012
Birtist í Morgunblaðinu 20.02.12.

...Verkalýðssamtök hafa fundið sig í þeirri kostulegu stöðu að krefjast annars vegar hárrar ávöxtunar og hvetja síðan til mótmæla á einkavæddum stofnunum þar sem kjörum er haldið niðri og þjónustu að sama skapi, til að fá sem mestan arð....Ef líferissjóðirnir eiga að nýtast samfélaginu vel til uppbyggingar verða ríki og sveitarfélög að annast milligöngu með fjárfestingar. ...
21. Febrúar 2012
Birtist í DV 20.02.12.

...Sjálfur hef ég sannfæringu fyrir því að okkar smáa hagkerfi rísi ekki undir því fyrirkomulagi sem við höfum smíðað og að við verðum að endurskoða sjálfan grunninn. Í því sambandi er vert að íhuga að smæð hagkerfis okkar er ekki einn áhrifavaldur. Þessa dagana erum við að verða vitni að fallvaltleika á kauphallarmörkuðum víðs vegar um heiminn....
19. Febrúar 2012
Setjum svo að við gætum flogið yfir Ísland og sett upp efnahagsgleraugu, svona einsog næturkíki, þá sæi maður eftirfarandi: 2000 milljarða í eigu almennings inni í girðingu sem heitir lífeyrissjóður; maður sæi ríkissjóð í eigu almennings sem skuldar 2000 milljarða; maður sæi 10-20 þúsund manns í atvinnuleysi; maður sæi heilsugæslu í niðurníðslu; maður sæi vegakerfi í ólestri. Fyrsta hugsunin væri auðvitað: Hvað veldur því að almenningur greiðir ekki upp skuldir sínar (helmingurinn af skuldum almennings er við sjálfan sig) með eignum sínum? Hvað veldur því að Alþingi ákveður ekki að...
Hreinn K
15. Febrúar 2012
Birtist í Morgunblaðinu 14.02.12

...Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vildi gera þá breytingu á frumvarpinu að hámarksávöxtun yrði leiðarljósið en ekki örugg og samfélagslega ábyrg fjárfesting eins og ég hafði viljað...
15. Febrúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu 14.02.12

...Þennan varnarsigur tel ég einn merkasta sigurinn sem vannst í kjarabaráttunni á vettvangi opinberra starfsmanna á undanförnum tveimur áratugum. Mætti hafa mörg orð um þessi átök og aðdraganda þeirra. Þegar samningar höfðu náðst lagði fjármálaráðherra að nýju fram frumvarp sem byggðist á þeim. Að sjálfsögðu studdi ég frumvarpið enda hafði ég gegnt hlutverki aðalasamningamanns BSRB. En ekki voru öll kurl komin til grafar því meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vildi gera þá breytingu á frumvarpinu að þar yrði sett inn ákvæði þess efnis að lífeyrissjóðirnir yrðu lögþvingaðir til að fjárfesta jafnan ...
14. Febrúar 2012
Trúðu mér, að aldrei hef ég fallerað fyrir framsóknarmaddömunni, en maður er svo dannaður að maður hlustar einstaka sinnum eftir orðræðu maddömunnar. Sér í lagi eftir að Utanríkismálanefnd ESB sá ástæðu til að gefa úr sérstaka fagnaðar-yfirlýsingu um að Jón Bjarnason hefði verið hrakinn úr embætti landbúnaðar- og sjávarútvegsmála Íslands og fyrrverandi Icesave fjármálaráðherrann tekinn því djobbi. Nú Sigmundur maddama spurði bara pent: „Hvaða ástæðu hefur Evrópusambandið til að fagna sérstaklega þessum ráðherraskiptum? Á hvaða hátt verður ...
Jón Jón Jónsson
14. Febrúar 2012

...Sjónvarpið segist strangt til tekið ekki hafa sagt neitt rangt. Sjónvarpið virðist ekki skilja að hið ámælisverða er að raða staðreyndum þannig saman að út komi ósönn og afskræmd mynd. Kannski er þetta skilningsleysi. Ég vona það. Hin tilhugsunin er verri þótt ég því miður hallist að henni; að verið sé að nota fréttastofuna til sverta mannorð fólks. Það er dapurlegt til þess að hugsa að einstakir menn á fréttastofu Sjónvarpsins skuli komast upp með að misnota vinnustað sinn með þessum hætti....
13. Febrúar 2012

... Hvers vegna skyldi ég gera svona mikið úr þessu máli? Það er vegna þess að mér finnst það vera grafalvarlegt þegar dregin er upp mynd í fréttum beinlínis til að afvegaleiða fólk og gefa ranglega til kynna að einstaklingur sé ómerkur orða sinna. Fréttastofu Ríkisútvarpsins vil ég geta treyst. Ég hef nú hins vegar kynnst óheiðarleika á fréttastofu Sjónvarpsins og verð að játa að það er óþægileg tilfinning að sitja fyrir framan Sjónvarpið og hlusta á fréttir af flóknum málum, en treysta illa því sem þar er sagt...
13. Febrúar 2012
Ég hef fylgst með viðureign fréttastofu RÚV við þig Ögmundur og furða ég mig á fréttamennskunni um lífeyrismálin. Útgangspunktur fréttamanna RÚV ert nánast þú einn - einn maður - en ekki málefnið! Nú fer maður að skilja hrunið. Þessir fréttmiðlar fylgdu útrásinni gagnrýnislaust. Nú er sama gagnrýnisleysið uppi á teningnum. Bara breytt formerki. Aðdáun á einkaþotum víkur fyrir áhuga á galdrabrennum. Eins mikil og þörfin er að ræða lífeyrismálin gagnrýnið einsog...
BSRB félagi
13. Febrúar 2012
Ætlar Innanríkisráðherrann að standa við loforð um mannréttindi í hvívetna? Ásamt því að virða og heiðra álit Mannréttindanefndar SÞ? Og þar með að bæta þeim sjómönnum þau mannréttindabrot sem framin hafa verið? Ekki trúi ég að Innanríkisráðherrann óttist gengið í LJÚ? Að gefnu tilefni finnst mér rétt að árétta við Innanríkisráðherrann stórfelld lögbrot sem framin eru enn í dag, sem og undanfarna áratugi, allt frá setningu kvótalaganna 1984. Umboðssvik og ...
Birgir Rúnar Sæmundsson
13. Febrúar 2012
Láttu svikula fjölmiðla aldrei kúga þig Ögmundur....
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
12. Febrúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu 11. 02.12.


Sem betur fer hefur þagnarmúrinn kringum þessa glæpi hrunið smátt og smátt á síðustu áratugum. Það er þó ekki nóg að þolendur geti sagt frá, heldur verður samfélagið að vera vel vopnað í baráttunni gegn þessum hroðaverkum...
11. Febrúar 2012
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
11. Febrúar 2012
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
Birtist í Morgunblaðinu 09.02.12.

...Með stóraukinni sáttameðferð er vonin að draga enn frekar úr tíðni mála sem rata til dómstóla og að þeim geti sem allra flestum lokið með sátt. Í sumum tilfellum gengur sáttin ekki upp og geta þar búið ólíkir þættir að baki. Þá þarf að úrskurða með einhverjum hætti þannig að friður ríki í lífi barnsins...
10. Febrúar 2012
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
10. Febrúar 2012
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
9. Febrúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu 08.02.12.

...Lögð yrði lagaleg skylda á herðar foreldra sem deila um forsjá og umgengni að fara í gegnum skipulegt ferli, sem yrði sniðið að því að ná samkomulagi. Ég tel þessa leið miklu betri fyrir barn, að reynt sé að ná samkomulagi og sátt í stað þess að lögmenn beggja aðila reyni að sýna fram á vankanta hins foreldrisins frammi fyrir dómara...
9. Febrúar 2012
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
9. Febrúar 2012
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
9. Febrúar 2012

...Fréttastofa Sjónvarps taldi sig geta sýnt fram á það í kvöld að sú staðhæfing mín væri röng að ég hefði ekki stutt ákvæði lífeyrislaga sem kváðu á um að lífeyrissjóðir ættu jafnan að leita eftir hámarksávöxtun í fjárfestingum sínum. Ég hefði nefnilega stutt lagabálk sem hafði að geyma ákvæði þessa efnis á sínum tíma. Aðeins ....En nú aftur að frétt Sjónvarpsins. Kannski á ekki að álasa fólki fyrir að kunna ekki skil á þessum sögulegu staðreyndum. Samt finnst mér sögulaust skilningsleysi fréttastofunnar vera mjög ámælisvert, einsog það birtist okkur í kvöld. Vera kann að stundum komi slíkt skilningsleysi ekki að sök en þegar verið er að hafa æruna af mönnum er varla til of mikils mælst að biðja fréttamiðla að setja menn í verkin sem hafa lágmarksþekkingu á viðfangsefni sínu, og hafa faglegan metnað, og standa heiðarlega að verki...
8. Febrúar 2012
Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
6. Febrúar 2012
...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn
6. Febrúar 2012
Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason
6. Febrúar 2012
Það verður að segjast Ögmundur að aðkoma þín að frumvarpi til breytinga á barnalögum er langt frá því að vera rökstudd svo að nokkru leyti geti talist. En forveri þinn í embætti dómsmálaráðherra hafði unnið mikið og gott starf í þágu barna hér á landi með það fyrir augum að færa réttindi barna til þess horfs sem að ríkir í öllum okkar nágrannalöndum með því að innleiða hér heimild dómara til þess að dæma sameiginlegt forræði. Meðan þú eyðir kröftum þínum í að verjast ...
Gunnar Waage
6. Febrúar 2012

...Erlent fræðafólk sem sótti ráðstefnuna tók í sama streng og tjáði mér að samtal sem þetta væri forsenda þess að efla meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu. Fulltrúi innanríkisráðherra og forseti Lagadeildar Háskóla Íslands staðfesta þetta samfélagssamtal með gein sinni í dag. Fyrir ári síðan tók ég undir þær raddir sem sögðu að á skorti að
„kerfin töluðu saman" í málefnum sem lúta að kynferðisbrotum. Ekki voru allir alls staðar sáttir við slíkar staðhæfingar og að ráðuneytið skyldi taka frumkvæði að þessari umræðu. Þær raddir hafa þagnað og samtalið er hafið. Það er gleðilegt því með slíku samtali eyðast fordómar og misskilningur og nýr veruleiki verður til...
5. Febrúar 2012
...Ég sé samt ekki allveg hvað rök eru fyrir því að ákæra ekki Geir H. Haarde. Þó auðvita eigi að ganga miklu fastar fram í að krefjast ábyrgðar af þeim sem stunda almenningsþjónustu og mun fleiri en Baldur og Geir eigi að sitja fyrir dómi. Það þýðir samt ekki að Geir eigi ekki að sitja þar er það? Aðrir en hann eru vissulega líka "sekir" en hann hlýtur að vera í það minsta ákæranlegur fyrir vanefndir í starfi, hagfræðingur sem hafði völd og vissi að ef hann gerði ekkert myndi allt fara út í móa, en hann gerði samt ekkert. Það hljómar í mínum eyrum eins og vanræksla á skyldum sínum. En þínum? Fyrirspurn mín er því sú; hvaða rök getur þú gefið mér fyrir þeirri áhvörðun þinni að vilja ekki ákæra Geir H Haarde? ...
Hallur Hróarsson
4. Febrúar 2012

...Þetta og sitthvað annað kom upp í hugann þegar Sjónvarpið kvað upp sinn myndræna dóm í fréttum kvöldsins þar sem sýnt var tap LSR með tilvísan í stjórnarformennsku mína á árinu 2007. Fréttaflutningur Sjónvarpsins þótti mér sannast sagna ekki upp á marga fiska og á það við um ýmsa aðra fjölmiðla sem sagt hafa frá umræddri skýrslu. Staðhæft er að LSR hafi tapað mest allra íslenskra lífeyrissjóða í hruninu.
Þetta er rangt. Hlutfallslega var tap LSR svipað og meðaltap allra lífeyrissjóða eins og það er reiknað í skýrslunni, minna en þeirrasem mestu töpuðu, meira en þeirra sem minnst töpuðu. Ef notaðar eru...
3. Febrúar 2012
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
1. Febrúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu 31.01.12.

...Heildarsamtök opinberra starfsmanna, BSRB og BHM ályktuðu eftir umræðu á Alþingi þar sem ég var spurður um IPA styrki í óundirbúnum fyrirspurnum og lét þá ofangreind ummæli falla, bæði um IPA og einnig í lokin, í framhjáhlaupi, um meinta gleði fundaferðalanga. Fróðlegt væri að heyra álit þessara samtaka á IPA styrkjunum, og þá einnig og ekki síður, hvort samtökin telja að fyrirvarar í aðildarviðræðum varðandi almannaþjónustuna og réttindi launafólks séu viðunandi, hvort við stöndum betur eða ver að vígi til varnar almannaþjónustunni í viðræðum við Alþjóðaviðskiptastofnunina innan eða utan ESB og fleira mætti telja sem fellur sérstaklega undir svið þessara samtaka. Fram hefur komið að bæði BHM og BSRB eru harmi slegin vegna yfirlýsinga minna og sáu ástæðu til...
27. Janúar 2012
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
26. Janúar 2012
Já, það eru fleiri sekir en Geir Haarde en ef einhver á að virða lögin sjálf og fara eftir þeim þá hlýtur það að vera innanríkisraðherrann. Og lögin gera ráð fyrir því ferli sem Alþingi samþykkti að setja í gang, saksóknari hefur birt ákærur og Landsdómur kveðið upp úr um að fjórar þeirra standi óhaggaðar. Þú veist það jafnvel og ég að í réttarhöldunum mun þáttur fjölmargra annarra í hruninu en Geirs koma fram. Margir þeir stjórnmálamenn sem nú hræðast það mjög að fá allt fram í dagsljósið og styðja tillögu Bjarna Ben eru bara að hugsa um eigin skinn. Það er hörmuleg ógæfa vinstrimanna á Íslandi að geta ekki staðið saman um mikilvæg mál og geta ekki séð stærra samhengi hlutanna...
Sigursteinn Masson
25. Janúar 2012
...Þú átt stuðning minn allan í afstöðu þinni og málflutning um landsdómsmálið...
Magnús
25. Janúar 2012
Sæll Ögmundur. Beint af fréttavef RÚV ohf, þann 24.01.2012: "Uppgjörið við hrunið væri að vinstri flokkarnir hefðu komist til valda, sagði Ögmundur." Í stað þess að fullyrða að hér hafi ekkert uppgjör átt sér stað í stíl þess sem allur óbreyttur og venjulegur almenningur hafði vænst, þá spyr ég bara ...
Jón Jón Jónsson
24. Janúar 2012
Nú er mikið gert með að uppgjör við hrunið muni ekki eiga sér stað nema réttað verði yfir Geir á grunni ráðherraábyrgðar.Getur verið að uppgjörið við hrunið eigi allt undir þessari ákæru? Segjum svo að þetta kærumál myndi klikka af einhverjum sökum öðrum en frávísun þingsins. Yrði þá ekkert uppgjör við hrunið og enginn sannleikur kæmi fram? Getur þetta verið rökrétt eða eru menn kannski farnir að keyra fastar eftir réttarhöldum en rættlæti? Hvernig getur það verið að ...
H. Stef.
24. Janúar 2012
Ómaklegt er að kalla Ögmund Jónasson handbendi íhaldsins og hrunverja. Hann er að mínu mati að gera okkur sem viljum veg vinstristefnu sem mesta stórgreiða, sérstaklega ef athafnir hans koma í veg fyrir að Geir verði einn ákjærður. Það helgast af því að Geir verður píslarvottur Sjálfstæðismanna og frjálshyggjunnar, sem munu hamra á óréttlæti gagnvart honum meðan kratarnir skjóta sínum hrunverjum undan málsókn. Málið gæti ...
Guðlaugur Gísli Bragason
23. Janúar 2012
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Það var þetta með krosstrén... Ég held að ég þurfi ekki að segja meir.
Hilda G. Birgisdóttir
23. Janúar 2012
...Það er mjög merkilegt að fylgjast með hvernig almenningur sveiflast til og frá eins og strá í vindi, í sambandi við Landsdómsmálið. Ég lít svo á að ef á að taka bara einn af fjórum í Landsdómsmálinu, þá geta það ekki talist eðlileg og fagleg vinnubrögð þingsins. Í minum huga er ekki réttlátt að taka einn mann, til að friða almenning, hvorki í þessu máli né öðrum. Það er ekki mikið að marka lög, sem gilda bara fyrir suma. Það eru ekki ósekir aðilar, sem hafa hæst um þessi mál núna. Það eitt og sér gerir ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
23. Janúar 2012
Tilgangurinn helgar meðalið Hjá Samfylkingunni gegn Sjálfstæðisflokknum, sem lýsti sér í því að halda eigin ráðherrum fyrir utan opinbera athugun. Síðan halda menn því fram að ákæran gegn Geir Haarde sé ekki pólitísk! Ég er þér hjartanlega sammála um, að dómur á Geir Haarde yrði fríbréf til annarra, sem ábyrgð bera á fjármálaspillingunni. Á grundvelli þess að komast fyrir orsakir fjármálahrunsins og læra á jákvæðan hátt...
Gústaf Skúlason
23. Janúar 2012
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
22. Janúar 2012
Það er kostulegt að þegar þingmenn fara eftir sannfæringu sinni, þá ætlar allt vitlaust að verða. Grein þín, Ögmundur, í Mbl. í vikunni, var góð og heiðarleg skilgreining á þeirri stöðu sem ákæra Alþingis á hendur Geir H. Haarde er komin í. Þú ert maður að meiri að viðurkenna fyrri mistök...
Birgir Sigmundsson
22. Janúar 2012
Alveg hef ég misst allt álit á þér, Guðfríði Lilju og Jóni Bjarnasyni. Þið eruð öflugustu bandamenn stjórnarandstöðunnar og sannið enn og aftur að vinstri menn sjá sjálfir um að klúðra stjórnarsamstarfi áður en kjörtímabilin enda. Af hverju getið þið ekki tekist á um þessi mál innan þingflokka ...
Kristjá G.
22. Janúar 2012
Eftir að hafa borið óskoraða virðingu fyrir þér í mörg ár (þú varst flokksstjórinn minn í unglingavinnunni forðum) og fundist sjónarmið okkar fara saman lengi, þá er það því miður ekki þannig lengur. Afstaða þín (og Guðfríðar) í Haarde-málinu er mér gersamlega óskiljanleg, og hefur orðið til þess að ég sendi VG eftirfarandi skeyti...
Ísak Harðarson
21. Janúar 2012
Nú er ég þér bálreiður. Já, ég er reiður þér fyrir mína hönd og þeirra kjósenda sem á sínum tíma kusu þig á þing til að berjast gegn þeim öflum sem þú nú virðist hafa gengið í lið með. Þú talar oft um að fara eftir eigin samvisku. Er samviska þín þá ekkert bundin kjósendum þínum? Á sínum tíma og allt fram að þessu, hef ég barist með kjafti og klóm fyrir framgangi þínum í stjórnmálum. Nú verð ég að biðja þá afsökunar, sem fóru að mínum ráðum í þeim efnum. Þú veist það, eða átt að vita, að nánast allir þeir sem kusu þig á þing, ætluðust til að þú gerðir þveröfugt við það sem þú nú gerðir í kosningunni um frávísunartillöguna. Aldrei hefði ég trúað því að þú yrðir einmitt ...
Jóhann B. Sveinbjörnsson
20. Janúar 2012
Þú mátt eiga það að þú kannt að hleypa upp fólki. Og er nýjasta ákvörðunin ekki sú fyrsta og væntanlega ekki sú seinasta til að valda fjaðrafoki. Að mörgu leyti er það vel. Við hverja einustu umdeildu ákvörðun þingmanns Vg þarf kjósandi og stuðningsmenn flokksins að hugsa, er þessi ákvörðun rétt eða er hún röng? Í nýjasta málinu, þar sem þú lýsir því yfir að þú styður tillögu Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins um að Alþingi falli frá ákærum á Geir Haarde veldur mér miklum heilabrotum. Í aðra röndina er ég þér sammála út í eitt en í hina er ég þér mjög reiður. Sé þessi ákvörðun ...
Ágúst Valves Jóhannesson
20. Janúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu 19.01.12.

...Vanþekkingu er eytt með fræðslu og umræðu en henni er viðhaldið með afneitun og þögn. Okkur öllum ber skylda til að hoppa ekki á vagn þess síðarnefnda, þótt það kunni að virðast einfaldara og þægilegra til skamms tíma.
Á ráðstefnu Evrópuráðsins var kallað eftir samtali við réttarkerfi, heilbrigðiskerfi og félagskerfi um kynferðislegt ofbeldi. Markmiðið er að ekkert barn þurfi að upplifa það sem ungmennin lýstu...
20. Janúar 2012
Samviskan er hulin sumum.
Sama hvað þeir reyna.
Hafa ekki hugmynd um
hvað þú ert að meina...
Hreinn K
20. Janúar 2012
Færi þér þakkir fyrir grein þína í Morgunblaðinu sl. þriðjudag. Vitaskuld geta menn haft mismunandi skoðanir á sekt eða sakleysi Geirs H. Haarde. Engan hef ég heyrt nefna að hann hafi á árinu 2008 gert sér far um að koma þjóðinni á hausinn. Þeir menn eru í öðrum vagni, á öðru spori. Afstaða þín er mér mjög að skapi og þú ert maður að meiri að skipta um skoðun og gera grein fyrir henni með þeim hætti sem þú gerðir. Greinilegt er að þú stendur fast á þínu. Það gætir þú ekki nema fyrir það að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, umber meira en aðrir í hennar stöðu áður. Hún gerir sér greinilega ljóst að ...
Gamall Alþýðuflokksmaður
19. Janúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu 18.0212.

...Það er athyglisvert að ýmsir sem komu að stjórnmálum í aðdraganda hrunsins hvísla því nú í eyru okkar að fráleitt sé að stöðva þessa málsókn: Það þurfi nefnilega að gera málin upp! Með þessum réttarhöldum er í mínum huga ekki verið að gera eitt eða neitt upp. Það kann hins vegar að vera að með þessum málatilbúnaði gerist hið gagnstæða, við látum afvegaleiðast í uppgjöri við fjármálakerfið og pólitísk afskipti af því og einkavæðingu á verðmætum samfélagseignum, þar sem einstaklingar högnuðust persónulega. Ekkert af þessu á við um Geir H. Haarde. Hann framfylgdi hins vegar pólitískri kreddu sem bjó í haginn fyrir hina raunverulegu svindlara...
19. Janúar 2012
...Hafðu þakkir fyrir einarða og skynsamlega afstöðu til dómsmálsins á hendur Geir Haarde. Sá málatilbúnaður er skírpaleikur einn og ekkert nema friðþægingarkapall lagður til þess að fría menn frá því að gera róttækar breytingar á stjórnaháttum og þjóðskipulaginu í heild sinni...
Guðmundur Brynjólfsson
18. Janúar 2012
Til hvers ertu í þessu starfi viltu ekki hleypa heilbrigðu fólki að?! Ég verð nefnilega að játa að núna er ég farinn að efast um andlegt heilbrigði þitt ef satt skal segja!! Til hvers haldið þið og núna þú að þið hafið verið kosinn á þing?! Til að hreinsa til þú ert nú ljóti bullustampurinn manngrýla!! Þetta eina tiltekna mál er hægt að líta á sem ...
Jóhann Björn Jóhannsson
18. Janúar 2012
Ég sem kaus þig í síðustu kosningum, vil hér með tilkynna þér að það mun ég ekki gera aftur. Þér er hér með sagt upp. Við trúðum því að uppgjörið við hrunið yrði heiðarlegt að allra leiða leitað til að láta þá bera ábyrgð sem ábyrgð bera. Sá sem var í forsæti fyrir hrunstjórnina og er nú fyrir dómi á auðvita að fá að svara fyrir sig og verja sig eftir bestu getu. Án dóms mun Geir H. aldrei fá uppreins æru. Án dóms mun hann alltaf vera sá sem braut af sér en vinir og klíkufélagar redduðu undan ...
Guðmundur Jónsson
18. Janúar 2012

...Margir líta á réttarhöldin yfir Geir sem uppgjör við hrunpólitík frjálshyggjunnar. Því fer fjarri. Málshöfðunin gengur einvörðungu út á meint brot - að uppistöðu til andvaraleysi - í átta mánuði árið 2008. Eftirfarandi eru ákæruefnin að viðurlagðri fjársekt og tveggja ára fangelsi. ...Ég minnist þess að koma á kosningafundi vorið 2007 þar sem þetta var aðalbrandarinn, mikið hlegið. En nú á að dæma Geir Haarde einan fyrir þennan aulahlátur! Hvort skyldi nú skipta meira máli að kveða upp fangelsisdóm yfir Geir H. Haarde vegna þessa vanmats á stöðu bankanna sem hann átti sammerkt með flestum íslenskum stjórnmálamönnum, fjölmiðlafólki og álitsgjöfum eða...
17. Janúar 2012
Er það rétt skilið Ögmundur og eftir þér haft sem hér kemur á eftir? "Þegar mál níumenninga voru fyrir dómstólum komu víða fram áskoranir til þáverandi dómsmálaráðherra að hann skyldi láta málið niður falla. Ögmundur svaraði þá ; „Ég get ekki, sem dómsmálaráðherra, haft afskipti af málinu meðan það er í þessum farvegi. Það er fyrir dómstólum og það er ekki á mínu valdi að hafa afskipti af málinu meðan það er þar. Við höfum haft okkar skoðanir á því hvort þetta mál ætti að fara inn í þann farveg sem það fór. Það gerði ...
Páll Valur Björnsson
17. Janúar 2012
Birtist í Morgunblaðinu 17.01.12.

...Í mínum huga er pólitískt uppgjör við hrunið margfalt stærra og mikilvægara en svo að það fari fram með málsókn á hendur örfáum einstaklingum fyrir mjög þröngt afmarkaðar yfirsjónir þeirra í aðdragandanum. Pólitísk ábyrgð á hruninu er margþætt og teygir sig alllangt aftur í tímann. Fyrir þessu var gerð ítarleg grein í Rannsóknarskýrslum Alþingis. Þær skýrslur voru vel unnar þótt langt sé frá því að þær hafi verið óaðfinnanlegar og má þar nefna að varðandi hina pólitísku ábyrgð tel ég marga hafa sloppið furðu vel frá borði. Afglöp margra stjórnmálamanna voru ævintýraleg og teflt á tæpasta vað í ýmsum efnum. Eftir á verður myndin ljós, sem mörgum var ...
17. Janúar 2012
Akso Nobel saltframleiðandinn sem framleiddi iðnaðarsaltið, sem Ölgerðin, Egill Skallagrímsson, dreifði og seldi í íslensk matvæli, sendi frá sé yfirlýsingu í gær. Iðnaðarsalt er ekki hættulegt mönnum eða dýrum. Fínt. Af hverju notum við það þá ekki áfram úr því iðnaðarsaltið er svona meinhollt, það er miklu ódýrara. Spyrja má: Af hverju framleiða menn iðnaðarsalt og af hverju matvælasalt? Önnur spurning sem gaman væri að spyrja og fá svar við er þessi:..
Jóna Guðrún
16. Janúar 2012

...En viti menn. Innan verkalýðshreyfingarinnar eru enn straumar - og virðast þeir jafnvel vera að eflast - sem ganga í þá átt að hreyfingin stofnanavæðist og gerist að uppistöðu til rekstrarstofnun; hverfi frá upprunalegu ætlunarverki sínu sem baráttu- og hagsmunagæsluaðili en leggi þeim mun meiri áherslu á hlutverk sitt sem rekstrarlegur þjónustuaðili. Skyldi það vera gott fyrir launafólk? Ekki tel ég svo vera. Skyldi það vera gott fyrir hina atvinnulausu? Nei, ekki tel ég svo vera...
15. Janúar 2012
...Að mínu mati er ekki þörf á því að herða skotvopnalögin með þessum hætti það er nú þannig að þeir sem stunda veiðar eða skotvopna sport af einhverju tagi þ.e innan félaga, í keppnum eða þá einfaldlega á eigin vegum ( íþróttaiðkun á eigin vegum er ennþá leyfileg) eru menn sem eru búnir að leggja mikið á sig til að eignast góð verkfæri til sinnar tómstundaiðkana og kosta stóru fé og mörgum árum til að eignast ýmsar gerðir byssa allt eftir því hvað þá langar að gera í það og það skiptið og flestir vita að þetta er ...
Sigurður Óskar Óskarsson
15. Janúar 2012
...Með sömu rökum og þú beitir gegn skotvopnaeigendum, eða að glæpamenn gætu komist yfir vopnin og misnotað þau gegn, lögreglu og borgurum, er með sama hætti hægt að segja að kraftmiklir bílar og mótorhjól séu líka misnotuð af glæpagengjum. Kannski rétt að gera þau farartæki upptæk í leiðinni, því ekki er hægt að halda því fram að þetta séu nauðsynleg farartæki fyrir borgara. Ert þú kannski að sjá fyrir þér að Hells Angels Motorcycle Club keyra um á vespum á Íslandi? Málið snýst ekki um ...
Sævar Helgason
14. Janúar 2012
...Hef stundum velt því fyrir mér hvað er gott og hvað vont hjá háskólaprófessorum. Róbert Spanó, forseti lagadeildar og prófessor, kemst að þeirri niðurstöðu að málareksturinn gegn Baldri Guðlaugssyni stangist á við ákvæði mannréttindasáttmála. Kann að vera. Er það misminni að Spanó hafi verið kallaður til sem ráðgjafi í vörn Baldurs? Muni ég rétt hefði hann átt að geta þess vinnusambands. Prófessorar, einkum forsetar deilda háskólanna, þurfa að...
Stefán
14. Janúar 2012
Ef þú styddir frelsi og lýðræði eins og þú þykist gera værir þú ekki á móti vopnaeign eins og versti kommunisti. Við eigum að miða okkur við vopnalögin í Bandaríkjunum og ekki leyfa marxisma ná rótum hér á landi.
Alex
14. Janúar 2012
...Síðan hvenær hafa hljóðdeyfar verið leyfðir á Íslandi?? En þér virðist vera í mun að banna þá ásamt öðru...
Stefán K
14. Janúar 2012
...Þar sem þú ert að ég held, hvorki skotveiðimaður né íþróttamaður í þessari grein mætti túlka okkur sem stunda þessi áhugamál sem glæpamenn.. Hvet þig til að skoða málið betur.Tek það fram að ég er ekki skammbyssueigandi en hef fylgst með þessari grein og skora á þig að kikja á næsta mót og fylgjast með..
Símon Símonarson
12. Janúar 2012
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...
11. Janúar 2012
...Mér finnst þú vera að þrengja að okkur sem stundum þessa íþróttagrein og þetta sem og svo margt annað sem kemur frá þér mætti líkja við kommunistaríki. Nei, Ögmundur þarna held ég að þú sért að gera mikil mistök, þú verður að átta þig á því að byssa með boltalás er jafnhættuleg og hálfsjálfvirk byssa, og ekki er það byssan sem veldur slysum, nei kallinn minn það er sá sem ber vopnið.
Undirheimarnir geta ...
Gunnar Zebitz
8. Janúar 2012
...Aðaleigandi verksmiðjunnar hefur átt lögheimili í Asiu lengi og spurning hvers vegna en mín spurning er hvort að ekki beri að endurskoða leyfi til verksmiðjunnar vegna heimilis aðaleiganda utan EES og einnig hvaða afgjald pr.líter kemur til þjóðarinnar? Vatn verður til framtíðar litið að áliti erlendra sérfræðinga mun verðmætara en olia ekki langt frá gullinu þar sem það fer þverrandi í heiminum.
Þór Gunnlaugsson
8. Janúar 2012
Er botninum loksins náð á Akureyri.... eða eru menn bara að afneita fortíðinni? ...
Þórður B.
7. Janúar 2012
...Fyrst sagði landlæknir að þetta mál heyrði alls ekki undir hann heldur Lyfjastofnun þetta væru jú lækningat(heilsufar sjúklinganna kemur landlækni greinilega ekki við þegar lækningatækin klikka). Lyfjastofnun gat sáralitlu svarað, hafði takmarkaðar upplýsingar og velferðaráðuneytið? Málið var ekki komið inn á þeirra borð. Allir snéru þeir sér í hringi. Eftir einn eða tvo hringi hvöttu allar þessar stofnanir konurnar til að hafa samband við sérfræðingana sem gerðu skurðaðgerðina á konunum! Þetta var sem sé einkamál kvennanna. Eftirlit og ábyrgð í skötulíki enn einn ganginn. Kannske af því þetta voru konur með fyllingar í brjósti. Og hvað segir svo velferðarráðherrann ...
Jóna Guðrún
7. Janúar 2012
...Ekki verður séð að nefndar lántökur hafi verið dregnar í efa. En þetta fólk á það sameiginlegt að hafa hlotið menntun sína í siðfræði við lagadeild Háskóla Íslands, hjá lærimeisturum sem þar miðluðu af óbilandi og ótæmandi siðferðisþreki sínu. Þau fræ hafa æ síðan borið "ríkulegan ávöxt". Það sem er ekki síst merkilegt við þetta mál allt saman er að framangreint fólk situr enn á Alþingi eins og ekkert hafi í skorist. Leyfir sér jafnvel að hafa í frammi gífuryrði og munnbrúk þegar því þykir að sér þrengt. En einn helsti kostur þess að vera gæddur sveigjanlegri siðferðiskennd er einmitt sá að fólk getur leyft sér bókstaflega hvað sem er. Siðferðið er einfaldlega lagað að aðstæðum hverju sinni....
6. Janúar 2012
...Það er ekki bara vegna þess að ég er orðinn mjög sáttur við Ólaf sem ég er að hvetja hann til að bjóða sig fram aftur, heldur líka vegna þess ef hann næði kjöri í kosningum núna þá væri það til marks um að þjóðin vill hafa forseta sem hefur hagað sér eins og hann hefur gert undanfarið með því að leyfa þjóðinni að eiga síðasta orðið um sum mál eins og við þekkjum. Þannig er kosning um Ólaf líka kosning um mótun forsetaembættisins. Nú er almennt álitið frekar óljóst hvað Ólafur er að pæla, hvort hann er að hætta eða hvort hann vill fá smá pepp áður en hann fer aftur í framboð. Þess vegna ætla ég að vara þig við því að...
Jón P. Líndal
6. Janúar 2012
Sæll Ögmundur. Kjararáð hefur nú hækkað laun yfirmanna í það sem áður var. Starfsmenn stjórnarráðsins hafa fengið það sem þau áður höfðu. Hefur þú kannað hjá þínum stofnunum hvort þær hafi skilað kjörum tilbaka til starfsmanna áður en til niðurskurðar kom? Frá hvaða tíma? Munum við heyra opinberlega af þeirri könnun?...
Starfsmaður á plani
6. Janúar 2012
Sá umfjöllun á Stöð II þar sem rætt var um framtíðarhlutverk Hegningarhússins. Vek athygli þína á tillögu sem kynnt var í miðopnu síðasta Bændablaðs - að gera húsið að "Matarhöll" þar sem fólk gæti keypt matvörur í litlum básum eða sérvöruverslunum: Sjá...
Tjörvi Bjarnason / sviðsstjóri hjá Bændasamtökunum
6. Janúar 2012

...Nú er það í sjálfu sér ágætt að vera sagður vilja hafa allt sitt á hreinu, mannorð og samvisku tandurhreina. Málið vandast þegar látið er í veðri vaka að hrænlætisástin sé nánast manísk, sé í reynd óbilgirni og ósveigjanleiki, nokkuð sem í stjórnmálum geri fólk óstjórntækt. Þetta er gamalkunnur tónn sem þau okkar þekkja, sem verið hafa upp á kant við tíðarandann. Það sem Sigrún Davíðsdóttir, fréttaskýrandi, áttar sig hins vegar ekki á, er að hún er með rangt fólk í sigti þegar spurt er um tregðu til málamiðlana í þá átt sem almenn viðhorf í þjóðfélaginu liggja...
5. Janúar 2012
...2004 varst þú með tillögu um aðskilnað fjárfestingabankastarfsemi og hefðbundinnar innlánsbankastarfsemi. Því miður fékk hún ekki brautargengi. Í þessu liggur grunnur vandans. Braskið með ávísununina á verðmætin, peningana, er uppspretta alls fjármálaóstöðugleika. Oft hef ég í umræðu vitnað í þessa tillögu þína og hversu skynsamleg hún var. Með afnámi Glass-Seagall frá 1936, var fyrsta óheillasporið stigið. Það sem hryggir mig Ögmundur er að núna höfðuð þið og hafið tækifæri til lagfæringa, en það er ekki nýtt. Enn eru hrunverjar að störfum í bönkunum. Hugmyndasmiðir Icesave hafa ...
Kristjón Benediktsson
5. Janúar 2012
Það örlar á pólitískri örvæntingu í þessum pistli og á ég þar við ummælin um Sjálfstæðisflokkinn. Eitt er ljóst, fólk vill eitthvað allt annað en VG og Samfylkinguna. Og þá er nú ekki um mikið að velja, eða hvað? Ögmundur það hefur eflaust ekki farið framhjá þér, að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur vaxið og haldist í grennd við ...
Ágúst
5. Janúar 2012

...Að þessu leyti eru stjórnmálin að breytast. Að vísu hægt en bítandi. Verst hve mörg fórnarlömbin hafa orðið í þeim umbrotum sem þessum breytingum fylgja. Þegar upp er staðið munu hins vegar allir njóta góðs af. Það skelfilegasta sem hægt er að hugsa sér eru stjórnmál án skoðana, stjórnmál án frjálsrar hugsunar, stjórnmál án hispurslausra skoðanaskipta. Ég held að margir séu að átta sig á því að gagnrýni á núverandi ríkisstjórn - vinnubrögð og ákvarðanir í einstökum málum -jafngildir ekki löngun til að fá Sjálfstæðisflokkinn til valda með öllu því sem honum fylgir. Gagnrýnin er sett fram vegna þess að...
4. Janúar 2012
...Siðgæðafólk hefur margt fleira hrærst í veröldinni, þótt aðeins séu nefndir tveir ofsóttir heiðursmenn til sögu. Þúsundir fjölmiðlamanna hafa látið líf sitt fyrir það eitt að vilja upplýsa fólk um veruleika þess. Sömu örlög hafa mætt rithöfundum og fræðurum um víða veröld, ekki síst á okkar dögum. Eitt samheiti slíkra er andófsfólk. Sums staðar búa valdbjálfar slíku fólki bana eða fangelsi með pínu. Lúmskari eru þau tökin að setja slíka í verkbann (Breufsverbot) eða ritbann, brúka mjúkar kúgunaraðferðir, sem samt hafa reynst góðar til árangurs. Útlegðardómar fást í ýmsum gerðum á ...
4. Janúar 2012
Þakka pistilinn um lýðræði eða raunverulega virðingu fyrir skoðunum annarra. Frábær pistill. Þú lýkur samantekt þinni með orðunum: "...frá núverandi stjórnarandstöðu, sem helst grætur auðlegðarskatt og tregðu við að falbjóða orkuauðlindirnar fjölþjóðaauðvaldi til brúks". Rökrétt niðurstaða málflutnings sjálfstæðis-og framsóknarmanna sem nú sitja á Alþingi. Langaði að bæta við örfáum orðum....Sjálfstæðisflokkurinn vill helst undanþiggja íslensk fyrirtæki eðlilegum skattgreiðslum og flokkurinn vill fá að ráða því hvað er gott og hvað vont fyrir þá "frjálsu einstaklinga" sem hann segist þjóna. Sá hópur er ekki fjölmennur. Nokkrir útgerðarmenn, nokkrir verslunarmenn, nokkrir bankamenn, nokkrir menn með fjármálavöld og svo hinir sem...Greinar, eins og þú settir saman um lýðræði, og dómgreind manna, eru til þess fallnar að varpa ljósi á eðli þeirra sem sigla undir fölsku flaggi....
Ólína
4. Janúar 2012
..."Í nóvember 2011 voru 115 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 101 fyrirtæki í nóvember 2010. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Fjármála- og vátryggingastarfsemi. Fyrstu 11 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 1.432 sem er um 63% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 877 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta." (Frétt frá Hagstofunni í dag). Ætli þetta séu eins manns félög eða tveggja, einkahlutafélög eða sameignar-, sem stofnað er til og sem rekin eru m.t.t. skattaumhverfis eða kostanna við að gera fyrirtæki gjaldþrota? Þessu þyrfti Hagstofan líka að svara....
Stefán
4. Janúar 2012

...Spurningin hefur hins vegar margar víddir og svarið er ekki alveg einfalt. Þannig hljóta stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar að spyrja sig hvort undir öllum kringumstæðum sé rétt að hanga á völdunum. Í mínum huga er svarið engan veginn einhlítt, það er háð aðstæðum í tíma og rúmi. Sjálfur hef ég alla tíð haft sterka fyrirvara gagnvart hrárri valdapólitík og tel því mikilvægt að halda stöðugt að okkur gagnrýnum spurningum um völd og áhrif. Sem betur fer hefur stjórnmálaflokkum oft tekist bærilega að láta orð sín og athafnir ríma og vera trúir hugsjónum sínum. Mörg dæmi eru líka um pólitískar hrakfarir þegar leiðarljósið hefur verið það eitt að halda um valdatauma...
3. Janúar 2012

Margt gott var sagt í þætti sem Sjónvarpið sýndi um störf
Evu Joly og félaga í baráttu gegn spillingu.
Jón Þórisson, samstarfsmaður Evu hér á landi, sagði frá íslenska Hruninu og skýrði spillinguna sem því tengdist á markvissan og ljósan hátt. Að sama skapi voru lýsandi yfirlýsingar margra annarra sem fram komu í þættinum. Nígeríumaður varpaði ljósi spillingarsögu Nígeríu og skýrði hvernig gráðugt alþjóðaauðvald mergsygi auðlindir landsins. Það sem til almennings rynni, færi í neyslu. Þess væri - á sögulegan mælikvarða -skammt að bíða að auðlindirnar væru þurrausnar án nokkurrar fyrirhyggju um uppbyggingu til frambúðar.
Hugarfarið þarf að breytast, sagði...
3. Janúar 2012
Treystir þú sjálfum þér betur en þjóðinni Ögmundur?...
Jón Jón Jónsson
2. Janúar 2012

...Því á áramótum eru iðulega teknar mikilvægar ákvarðanir. Um þessi áramót bar hæst á góma í mínu nærumhverfi ráðherraskipti í ríkisstjórn. Jón Bjarnason vék af vettvangi - þessum vettvangi. Það var niðurstaða sem mér var ekki að skapi. Jón Bjarnason hefur hins vegar ekki horfið af hinum pólitíska vettvangi. Mér segir hugur að ekki eigi hann eftir að verða þögull á Alþingi og innan VG, en hann hefur mælst til þess við samherja sína á þeim bæ... Til að innsigla áramótin og minna mig í senn á fortíð og framtíð, afhenti Elín Björg Jónsdóttir, formaður, BSRB, mér áritaða dagbók, sem er sömu gerðar og ...
2. Janúar 2012
...Hyggst þú áfram styðja ríkisstjórnina eftir að Jóni Bjarnasyni hefur verið bolað í burtu? Svona í ljósi þess að VG talaði um opna og gagnsæja stjórnsýslu væri gott að fá svör við þessu...
Hermundur