Beint á leiđarkerfi vefsins

30. Janúar 2011

ŢJÓĐIN Á BETRA SKILIĐ!

Hafís, hungur og hallæri þjökuðu öldum saman íslensku þjóðina með tilheyrandi mannfelli. Hins vegar stóð eitt mesta niðurlægingartímabil þjóðarinnar frá 1991 til 2008. Áróður, undirbúningur og mótun hugarfars almennings hafði við upphaf tímabilsins staðið yfir í um áratug, eða frá 1979, þegar boðuð var leiftursóknin svokallaða. Undirbúningurinn hafði aðeins eitt markmið; að ryðja götu takmarkalausrar markaðshyggju og einkaeignarréttar á Íslandi. Með því að virkja og höfða til lægstu hvata mannsins, s.s. gróðafíknarinnar, tókst smám saman að vinna frjálshyggjunni fylgi, með hugarfarsbreytingu, sem nægði til yfirtöku hennar á íslensku samfélagi við upphaf tíunda áratugarins. Þessi lágkúrulega ...
Kári

30. Janúar 2011

SEGĐU AF ŢÉR!

Kæri Ögmundur Hvers vegna í ósköpunum segirðu ekki af þér sem innanríkisráðherra? Þú berð pólitíska ábyrgð á því sem gerðist í ráðuneytinu þínu, jafnvel þótt þú hafir sjálfur ekki haft hugmynd um að það yrðu notaðir pappakassar í stað trékassa! Þú myndir líka skapa mjög gott fordæmi með því að segja af þér. Hugsaðu þér einhvern tíma í framtíðinni, þegar þú ...
Guðvarður

27. Janúar 2011

ÉG HVET ALLA AĐ KYNNA SÉR MÁLAVÖXTU!


...Ég leyfi mér að hvetja alla til að kynna sér þessi mál vel og þar með einnig úrskurð Hæstaréttar. Einhvers staðar sagði ég að mér þætti Hæstiréttur byggja úrskurð sinn á þröngri túlkun á lagabókstaf. Um þessi ummæli mín hef ég vaxandi efasemdir því mér sýnist úrskurður Hæstaréttar byggja á almennu mati en ekki þröngri lagatúlkun. Hef ég lýst undrun á úrskurði Hæsttaréttar og fært fyrir því rök með tilvísan í landslög. Það breytir því ekki að úrskurðinum ber að hlíta. Sá undarlegi skilningur var uppi hjá ýmsum sem tjáðu sig um málið á Alþingi í dag að ekki mætti finna að niðurstöðu Hæstaréttar og rökræða hana! Ef þessi skilningur yrði uppi værum við að fjarlægjast réttarríkið og réttinn til tjáningarfrelsis. Málefnalegri gagnrýni á úrskurð Hæstaréttar má ekki rugla saman við hitt að farið sé að úrskurðinum...

26. Janúar 2011

SANNGIRNI OG HAGSÝNI

Eðlilegast er að Alþingi staðfesti kjör fulltrúa á Stjórnlagaþing.Álit Hæstaréttar mun standa eftir sem áður og hægt að taka tillit til þess ef sambærilegar kosningar verða haldnar síðar. Enginn efi er á að niðurstaða kosningarinnar er í samræmi við vilja þjóðarinnar. Aðalatriðið er að ...
Eyjólfur

25. Janúar 2011

STÓRNARSKRÁIN OG ESB

Skil ekki hvaða áhyggjur þú hefur af stjórnlagaþingingu, sem hafði þann tilgang helstan að aðlaga stjórnarskrána ESB umsókn. Í nýjasta "prógress report" frá því í haust, segir: Legislation to elect an advisory constitutional assembly was adopted in June. The task of the assembly is to prepare a proposal to parliament for a new constitution. Among the issues to be addressed is delegation of powers by the State to international organisations. Má þetta ekki bara bíða og frekar ættum við að
Hreinn K

25. Janúar 2011

SIGURĐUR KÁRI KVARTAR

...Þessi vanbúnaður sem Sigurður vísar til liggur þá kannski að einhverju leyti hjá þingmönnum. Þá meina ég þingmönnum af þeirri sort sem telja starf sitt felast í því að samþykkja frumvörp ef þau virðast líkleg til vinsælda og kenna öðrum um síðar ef þau reynast ekki vel. Gæti verið að þetta dæmi sýni vanda stjórnkerfisins? Gæti verið að engin stjórnarskrá skili okkur sterku og sjálfstæðu Alþingi meðan þetta er viðhorf manna?
Árni V.

24. Janúar 2011

UM AĐFÖR AĐ HEILBRIGĐISKERFI, MAGMA OG FLEIRA


...Tilefnið af viðtalinu við Rúnar Vilhjálmsson er fréttaumfjöllun um tvö ný einkasjúkrahús sem nú eru í  burðarliðnum, gamla hersjúkraúsið á Keflavíkurflugvelli, nú nýuppgert fyrir tilstilli fjárfestingarsjóðsins Kadeco  og annað í Mosfellsbæ. Hér á síðunni hafa komið fram ströng varnaðarorð og hafa stjórnvöld verið sökuð um að standa ekki nógu vel valktina um almannahag...Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrgðisráðherra Framsóknarflokki, spyr í Morgunblaðsgrein hvort reykskynjari stjórnvalda sé ekki í lagi hvað snertir yfirvofandi hættu á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og að við þar með stefnum inn í tvöfalt kerfi. Þetta var gott og mjög þarft innlegg frá  Ingibjörgu Pálmadóttur! Gott líka hjá Stöð 2 að sýna þessu máli áhuga nú síðustu daga. Það er mikilvægt að ...

22. Janúar 2011

Á KVEĐJUSTUND


"Hún átti því ekki sannleikann, en hitt þráði hún, að sannleikurinn mætti eiga hana og því var hans sífellt leitað." Þetta sagði séra Þórir svo réttilega í minningarorðum sínum og komst þannig að sjálfum kjarnanum í hugsun móður minnar. Ólafur B. Andrésson, orðaði þetta líka vel í minningargrein sinni þegar hann sagði að Guðrún Ö. Stephensen hefði ekki verið kona stórasannleika heldur hafi hún verið kona nálgana. Hún var hvorki kona kreddu né isma og þegar Björn Patrick frændi minn sagði hana hafa verið trúaða konu þá bætti hann við að aldrei minntist hann þess að hafa heyrt hana ræða trúmál. Hennar trú var trúin á hið góða og á...

18. Janúar 2011

KOSTNAĐURINN VIĐ AĐ KJÓSA

...Oft hefur verið talað um að Evrópski fjárfestingarbankinn vilji ekki lána Landsvirkjun fyrr en Íslendingar gangi að kröfum Breta og Hollendinga um Icesave. Aldrei er þó minnst á að fjármálaráðherrar Breta og Hollendinga sitja í stjórn bankans...Við þetta bætist að nú liggja á borðinu Icesave samningadrög, þar sem Bretar og Hollendingar hafa þurft að viðurkenna að kröfur þeirra voru langt umfram það sem Brussel viðmiðin gerðu ráð fyrir. Það er mat samninganefndarinnar að sparnaðurinn frá fyrri samningi sé 110 milljarðar....Enn hefur ekki verið sýnt fram á greiðsluskyldu Íslands. Nú eru rökin fyrir því að samþykkja Icesave III þau að Icesave I og II voru miklu verri. Það sé of tímafrekt að leita réttar sins. Sæma slík rök sjálfstæðri þjóð?...
Áhugamaður um gagnrýna hugsun

18. Janúar 2011

STYRKJUM ÁS STYRKTARFÉLAG!


...Það er einmitt þetta síðastnefnda sem mig langar til að vekja athygli á, því á morgun klukkan 15 fer fram útför móður minnar, Guðrúnar Ö. Stephensen frá  Dómkirkjunni í Reykjavík. Það væri mjög kærkomið og í hennar anda að þeir sem vildu minnast hennar gerðu það með stuðningi við þá mikilvægu starfsemi sem fram fer á vegum Áss styrktarfélags. Á heimasíðu Áss styrktarfélags er reitur þar sem komast má inn á ...

18. Janúar 2011

MEINT TREGĐA INNANRÍKISRÁĐUNEYTISINS

Birtist í Morgunblaðinu 15.01.11.
MBL  - Logo...Ég ítreka að málið er gríðarlega viðkvæmt og allir hlutaðeigandi auðsæranlegir. Sársaukinn getur orðið mikill þegar almenn umræða er heimfærð á einstök tilvik. Þess vegna hef ég viljað forðast að samtvinna þetta tiltekna persónulega mál umræðu sem við þó erum nauðbeygð að taka ef við ætlum að vera sjálfum okkur samkvæm...

15. Janúar 2011

VAKANDI ÓLÍNA, SOFANDI FJÖLMIĐLAR, DAUĐ PÓLIITÍK!!!

Takk Ólína. Sunna Sara skoraði á þig að skrifa hér á síðuna einsog þú hefur svo oft gert. Í hjarta mínu tók ég undir þessa áskorun. Síðan hafa komið tveir pistlar frá þér. Annars vegar um verktakabransann hjá ykkur í vinstri stjórninni Ögmundur og hins vegar einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og aulaviðbrögðin við því úr Stjórnarráði og Alþingi (Guð minn góður Guðbjartur, Þuríður...! ). En með hliðsjón af gagnrýni þinni á fjölmiðla Ögmundur langar mig til að spyrja hvernig á því standi að einhver Ólina....
Jóel A.

14. Janúar 2011

AD HOMINEM


Á latínu er til hugtak sem margir eflaust þekkja, ad hominem eða argumentum ad hominem.  Þetta er notað þegar rökræða beinist að persónu þess sem heldur fram málstað fremur en málstaðnum sjálfum. Í pistli hér á síðunni, Er verið að biðja um þögn? , fjallaði ég um fjölmiðla og tilhneigingu þeirra til að gera einmitt þetta, að beina athygli að málflytjanda en ekki málstað. Þótti mér þessi afstaða einkenna gagnrýnisleysi og yfriborðsmennsku sem var einkennandi í aðdraganda hrunsins. Sjálfur hef ég oft fengið að kynnast þessu. En viti menn, það sem helst hann varast vann, varð þó að koma yfir hann... Í umfjöllun minni  vísaði ég máli mínu til ...

14. Janúar 2011

NORRĆN VELFERĐ

Nú reisa þeir einkasjúkrahús, kjánarnir. Og heilbrigðisráðherrann fagnar, og formaður heilbrigðisnefndar Alþingis brosir vandræðalega og óttast að laun heilbrigðisstarfsmanna kynnu að hækka. En hvernig eru einkaspítalarnir íslensku hugsaðir? Menn hyggjast reisa einkaspítala. Einn í fitusog, annar í mjaðir og hné, sá þriðji í tennur. Talsmaður sameinaðra sérhagsmuna væntanlegra eigenda spítalanna er alþingismaðurinn Magnús Orri Schram og fyrrverandi alþingismaður og nafni Magnúsar hyggst græða á því að stofna sjúklingamiðlun. Og þetta er alls ekki gert til að sinna Íslendingum heldur ríkum útlendingum sem vilja láta Mörlandann lækna sig.
Maður spyr sig: Ef þeir eru svona ...
Ólína

14. Janúar 2011

ÍBÚAR Í GÍSLINGU

Látum eitt yfir alla ganga. Enginn greiðir veggjald sem fer um fjallgöng á Íslandi. Einu veggjöldin eru við Hvalfjarðargöng rétt utan Reykjavíkur. Nú stendur jafnvel til að taka íbúa á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannsveitarfélögunum í gíslingu. Enginn skal komast út fyrir borgarmörkin né inn fyrir þau nema ...
Skarphéðinn P. Óskarsson

13. Janúar 2011

VERKTAKA FYRIR VINSTRI MENN

...Þessar upplýsingar sem DV hefur birt sl. tvö ár hljóta að gefa mönnum tilefni til að skoða bæði eignarhald, verkefni og greiðslur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna til fyrirtækjanna í Lækjagötu 4, ekki bara frá 1. janúar 2009 heldur frá 1. janúar 2007. Á þessum tíma hafa setið tvær ríkisstjórnir, hægri stjórn Sjálfstæðis- og Samfylkingar og miðjustjórn VG- og Samfylkingar. Ef við höfum í huga setningu úr bréfi Ríkisendurskoðunar frá í júní 2009 "...Þá er ljóst að bjóða hefði átt út ráðgjafarverkefnið sem InDevelop var falið. Telur Ríkisendurskoðun að ráðuneytið þurfi að endurskoða verklag sitt við kaup á sérfræðiþjónustu." þá hljóta menn að spyrja: Af hverju eiga fyrirtækin inDevelop og Stjórnarhættir þetta innhlaup hjá tveimur ráðuneytum eða þremur? Eða með öðrum orðum, hver er samningamaðurinn af hálfu almannavaldsins á þessu ...
Ólína

11. Janúar 2011

SAKNA ÓLÍNU!

Eitthvað hefur dregið úr skrifum Ólínu hér í lesendadálkinum hjá þér Ögmundur. Ég sakna skrifa hennar. Ég er löngu búinn að sjá að þetta er ekki Ólína þingkona sem ég hélt um hríð. Meira sammála þinni Ólínu Ögmundur! Óvenjulega skörp skrif úr hennar penna. Lát heyra frá þér Ólína!
Sunna Sara 

11. Janúar 2011

ER VERIĐ AĐ BIĐJA UM ŢÖGN?


..Til að þetta gangi upp mega menn ekki óttast ágreining, aðfinnslur, gagnrýni. Ekki hef ég neitt við það að athuga þótt samstarfsfólki í Samfylkingunni skuli hafa þótt andstaðan við að senda inn umsókn að ESB á sínum tíma bera vott um þröngsýni VG, eða þótt Róbert Marshall, svo tekið sé nýlegt dæmi, hafi þótt skorta pólitíska forystu við sandmokstur í Landeyjarhöfn, eða þótt Merði Árnasyni, samflokksmanni hans, þyki ...

9. Janúar 2011

INN UM BAKDYRNAR?

...Undanfarnar vikur hafa heitar umræður og skrif átt sér stað um hin ýmsu málefni sem nú eru þjóðinni aðsteðjandi og eflaust þau flest af toga mikilvægis og þurfandi úrlausna. Þó hefur algerlega gleymst í skammar- og gífuryrðar orðræðunni, að ESB er á leiðinni inn um bakdyrnar á fiskveiðilögsögu okkar beitandi fyrir sig evrópskum fjárfestingarrisa og virðist nú eiga greiðan aðgang með fulltingi og stuðningi Vestiu nokkurrar er hyggst selja þeim Icelandic Group. Vá þessi er ógnarleg í mínum huga og finnst mér að mál þetta beri að skoða þar sem ríkið ætti að eiga greiðan aðgang að ákvarðanaferlum Landsbankans. Eflaust er ...
Óskar K Guðmundsson fisksali.

3. Janúar 2011

Baldur Andrésson skrifar: SÉREIGNADELLA Í UPPNÁMI UM ÁRAMÓTIN 2010 / 2011

Fyrst almenn áramótakveðja um kjarna máls: Stórþrýstingur frá STÓRVEKTÖKUM m.a. innan SA hefur mótað fyrirætlanir um vegagerð óeðlilega. Ær og kýr slíkra eru fá milljarðaverkefni, sem þeir ætla sér einir að sitja að. (Autobahnar og jarðgöng). Slík verkefni krefjast lítils mannafla m.v. risaútgjöldin. Margar smærri framkvæmdir, smærri verkhlutar og mögulega aðrar áherslur (t.d. 2+1 vegir í stað 2+2) gefa mörgum smáverktökum mikil tækifæri og þau skapa samtals meiri mannaflaþörf m.v.tilkostnað. Margt mælir því með áherslubreytingu nú, breyttri hugsun, sem að auki yrði að alþýðuskapi á Íslandi... 

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EĐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLĆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIĐLAR SKOĐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóđin mín:

Allar greinar

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta