Beint á leiđarkerfi vefsins

29. Desember 2011

OFAN Í KASSANA!

Birtist í Fréttablaðinu 28.12.11.
Fréttabladid haus...Hannes Hólmsteinn minnir okkur á þessa tíma, ekki síst með eigin efnistökum, þegar hann fjallar um sósíalista á Íslandi á árum áður. Það er ekki nóg með að hann sé ónákvæmur og fari rangt með, heldur eru hinir óþóknanlegu afgreiddir með skírskotun til þess kassa sem Hannes ætlar þeim í tilverunni...Í utanríkismálanefnd fór fram nákvæmlega sams konar umræða, nema þar höfðu fjölmiðlar engan áhuga á efnisinnihaldi umræðunnar heldur á því einu að einn stjórnarþingmaður var á sömu skoðun og þingmenn í stjórnarandstöðu. Sjónarmiðin voru með öðrum orðum ekki eftir flokkslínum fremur en í ríkisstjórn. Þetta varð stórfrétt og þótti mér örla á lönguninni til að kveða upp pólitíska útlegðardóma yfir þeirri þingkonu sem hafði vogað sér ofan í rangan kassa. Hvenær skyldum við ...

29. Desember 2011

EKKI NEMA EITT HRUN

Nú ætlar VG að selja hlut ríkisins í Landsbankanum. Það þurfti ekki nema eitt hrun til að fá VG til að skilja yfirburði kapítalismans.
Hreinn K

27. Desember 2011

TREYSTU ŢJÓĐINNI!

...Hluti styrksins er ætlaður í tækjakaup við nýja námsbraut fyrir ráðstefnutúlka við Háskóla Íslands. Hagstofan fær um 132 milljónir króna til að bæta gerð þjóðhagsreikninga." Jæja Ögmundur minn, þykist þú enn enga ábyrgð bera á þessari aðlögun, sem fleiri og fleiri hugmyndafræðilegar stofnanir ríkis-valdsins eru hægt og bítandi að njörva líf okkar aumra niður, án þess að þjóðin hafi nokkru sinni beðið um það? Þjóðin hefur aldrei beðið um eða kosið um inngöngu og aðlögun að ESB! Þú Ögmundur, sem hluti valda-kerfisins, hefur vald til að stoppa þetta rugl af. Þú ert mas. í odda-stöðu, veistu það ekki? Það eina sem þú þarft að gera er að ...
Gapandiundrandi

27. Desember 2011

KJÓSA UM ESB

Ég er svo fegin að vg-manneskja sér og viðurkennir að þessi þjóð verður að koma ESB-kosningamálinu frá sér! Þótt fyrr hefði verið. það er löngu kominn tími til pólitískt séð, að Íslendingar segi sinn hug (einu sinni eða tvisvar eins og Norðmenn). Ég er ein af þeim sem vil samninginn og mun ekki segja "já" við hverju sem er, en geri mér fyllilega grein fyrir umhverfi Íslands síðastliðin 40 ár (kannski ólíkt fyrrverandi stjórnvöldum?). Við landsmenn hefðum átt að ...
Anna B. Mikalesdóttir

27. Desember 2011

NÝ STEFNA?

Bæjarstjórnarmeirihluti VG og SF í Hafnarfirði samdi nýverið við erlendan banka um endurfjármögnun á eldri lánum sem bærinn hafði ekki staðið í skilum við í nokkurn tíma. Bærinn og erlendi bankinn (eða skilanefnd hans) hafa nú náð samkomulagi um lánin gegn því að Hafnarfjarðarbær veðsetji 15% hlut sinn í hinu opinbera fyrirtæki HS-Veitur. Fyrirtækið sem er í almannaeigu og hefur þann tilgang að ...
Hermundur

27. Desember 2011

UM FERĐAKOSTNAĐ OG ANNAĐ

Já dagpeninga og ferðakostnaðarmál eru umtöluð í fjölmiðlum og kanski ekki furða þegar hann er yfir 1.1 milljarður. Þarna greinir menn á hvers vegna eru þessir dagpeningar greiddir ráðherrum þótt ríkið greiði í raun allan ferðakostnaðinn. Það hefði mátt spyrja hver greiðir launakostnað ráðherra sem vinna um kvöld og helgar ásamt ferðum erlendis án þess að gera sérstakan reikning fyrir yfirvinnu hvað þá að bæta við sig heilu ráðuneyti. Þetta hefði verið kölluð þrælavinna eða af ættjarðarást en ekki vildi ég skipta. Fargjöld eru dýr og þess vegna ...
Þór Gunnlaugsson

23. Desember 2011

NÝ SÍĐA TIL AĐ FYLGJAST MEĐ

PHH - sida
 ...Síðu Páls H. Hannessonnar, sem er að öllu leyti á hans eigin ábyrgð, er ætlað að fjalla um ESB - velferð, verkalýðsmál, efnahagsstjórnun og fleira á þeim bæ. Á síðunni segir m.a. til upplýsingar að þar verði „fjallað um umsóknarferlið og það gegnumlýst eftir föngum, ...um velferðarsamfélagið og ESB og hina fjölmörgu þætti sem snúa að almannahagsmunum" Ég mæli með því að við fylgjumst með skrifum Páls. Hann er þegar tekinn til við að gagnrýna okkur sem ábyrg erum fyrir samningaviðræðunum og telur að velferðarvaktin hafi ekki verið sem skyldi!...

23. Desember 2011

SPURT OG SVARAĐ

...Tillaga um aðildarumsókn að Evrópusambandinu er lögð fram til þess að íslenska þjóðin fái tækifæri til að hafna eða samþykkja samning um aðild að sambandinu þegar hann liggur fyrir. Er þetta ekki það sem þú Ögmundur kallar í dag endemis rugl. En hvernig greiddi Ögmundur Jónasson atkvæði þessu endemis rugli þann 16.07.2009??
Jón Heiðar

23. Desember 2011

TRÚNAĐARMÁL?

...Athyglisvert að þinn flokkur sem er í oddastöðu í Hafnarfirði skuli nú hafa veðsett land bæjarins til þrotabú erlends banka. Þú hafnar Nubo sem ætlaði í uppbyggingu en þinn flokkur samþykkir afsal lands til vaxtamunaviðskipta! Svipað og í Icesave málinu framan af, er leyndarhyggjan um vaxtakjör og önnur atriði sláandi fyrir sjtórnmálaflokk sem boðar gagnsæi og allt upp á borðinu. Á einhver að trúa því að lánasamningur sveitarfélags við þrotabú gjaldþrota banka sé trúnaðarmál?
Arnar Sigurðsson

22. Desember 2011

Kári skrifar: FJÖLBREYTT FLÓRA GLĆPA-MENNSKU

Hin síðari ár hafa nýjar "jurtir" bæst við flóru glæpamennsku á Íslandi. Nýtísku bankaræningjar hafa mjög látið til sín taka, sópað til sín sparifé almennings innan lands og utan, stolið öllu sem mögulega er hægt að stela. Íslenskir stjórnmálamenn, sem reisa áttu skorður við athæfinu með lögum og eftirliti, létu flækja sig í vef þjófanna og þegja því þunnu hljóði um glæpina. Nokkrir þessara sjórnmálamanna höfðu bein tengsl inn í föllnu bankana og fengu afskrifaðar háar upphæðir sem aldrei stóð til að endurgreiða. Stjórnmálamennirnir lifa í voninni að almenningur verði fljótur að fyrna og fyrirgefa, eygja endurkjör í næstu kosningum. Sumar skoðanakannanir benda líka til þess að væntingarnar kunni að vera raunhæfar, enda dreymir ótrúlega marga um að tilheyra einhverjum hópi glæpamanna. Lífssýn margra kjósenda, bankaræningja og stjórnmálamanna fellur því oft í sama farveg að þessu leyti. En það eru ekki bara umsvifamiklir hópar bankaræningja sem bæst hafa í íslensku glæpaflóruna, þar má líka finna annars konar glæpamenn. Undanfarin ár hafa umdeild vélhjólasamtök skotið rótum í landinu. Þar er um annars konar hópamyndun að ræða. Hins vegar hafa þeir sem stunda "gamaldags" glæpi líka tekið tæknina í sína þjónustu, sérstaklega tölvutæknina, og mætt þannig kröfum nútímans. Helsti munurinn á...

22. Desember 2011

ŢJÓĐIN VILL...?

GUL EVRA
Margt ágætt sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Ekki var ég honum þó sammála um allt. Þannig var ofsagt hjá honum að mínu mati að „þjóðin" vildi fá að vita hvað kæmi út úr viðræðunum við ESB. Það er líka ofsagt hjá utanríkisráðherra að ESB/EVRU gulrótin væri nú digrari og litfegurri en áður! Um hið síðara ætla ég ekki að fjölyrða... Ég ætla hins vegar að hafa nokkur orð um meintan þjóðarvilja... Við skulum hætta að tala um tímasetningu á þjóðaratkvæðgreiðslu einsog við fáum engu þar um það ráðið, þetta sé nánast komuð undir óviðráðanlegu náttúrulögmáli. Við eigum að sjálfsögðu að segja samninganefndunum hvenær hentar okkur að kjósa. Þær hagi sínum...

22. Desember 2011

VAR ŢETTA SVONA?

Er það ekki rétt munað hjá mér að VG hafi viljað þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort sækja ætti um aðild að ESB en Samfylking ekki viljað það? Virtist eitthvað bangin við lýðræðið. Á endanum hafi VG gengist inn á að fara fram með umsóknina. Í Kastljósi var að skilja á Össuri Skarphéðinssyni að VG hefði verið sérlega áhugasamt um umsókn og að meirihluti kjósenda flokksins vilji ólmir inn í ESB. Er hægt að segja hvað sem er án þess að ...
Jóhannes Gr. Jónsson

21. Desember 2011

VIĐ GETUM VARIST

...Það sem mér liggur á hjarta nú er Schengen samningurinn. Ég horfði á Cameron gera Breska þinginu grein fyrir synjun sinni á nýjum sáttmála ESB og hvað liggi þar á bak við og ekki sparaði hann stóru orðin um ágæti samninganna við ESB. Hann staðfesti að Bretar væru og yrðu 100% aðilar að ESB en tækju aldrei upp Evruna og ekki yrði Schengen tekið upp þar í landi þar sem stjórnvöld vildu halda þjófagengjum og ræningjum frá landinu en ekki bjóða þeim í veiðitúra þar. Þetta eru stór orð og ...
Þór Gunnlaugsson

20. Desember 2011

ODDSSKARĐ Í VEGI FYRIR FLUTNING

Ég hef stundað skólagöngu núna í haust til Neskaupstaðar og lent í því að þurfa að sneiða frá grjóti sem hrunið hefur úr lofti ganganna, og þá hafa ekki verið framkvæmdir af neinu tagi, hvað sem þessum umræddu myndum líður þá er hætta inní göngunum og það á ekki að gera lítið úr henni. Ég hefði kosið að flytja til Norðfjarðar til að auðvelda skólagönguna sem ég þarf að taka með vinnu en ég fæ ekki maka minn til að flytja þangað bara út af Oddskarðinu og göngunum. Mér finnst líka að það megi koma fram að...
Skarpi

20. Desember 2011

FRÁLEITT AĐ STÖĐVA LANDSDÓM!

Landsdómur er ekki hefðbundinn glæpamannadómstóll eins margir virðast álíta. Landsdómi má rétt eins líkja við sjópróf. Þegar alvarlegur atburður gerist úti á sjó er það rannsakað fyrir dómi þar sem skipstjórinn og aðrir sem að málinu koma eru kallaðir til upplýsinga og ábyrgðar. Komist er að því hvort skipstjórinn eða aðrir hafi gert mistök eða sýnt af sér vanrækslu. Þjóðarskútan strandaði og það er afar mikilvægt að öllum hliðum þess máls sé velt upp fyrir Landsdómi. Þjóðin á heimtingu á því og ...
Pétur Kristjánsson

19. Desember 2011

SAMBĆRILEGT?

Þakka svarið við spurningu minni í gær um Landsdómsmálið. Kemur ekki til skoðunar að embætti Sérstaks saksóknara verði lagt niður með sömu rökum?
Kristján Sig. Kristjánsson

19. Desember 2011

BARÁTTAN FYRIR SAMGÖNGUBÓTUM

Oddskard - grjothrun
 ...Þau sem undanfarna daga hafa sent þessa mynd hér að ofan til alþingismanna með dramatískum textum, sem gefa til kynna að göngin um Oddskarð séu lífshættuleg vegna grjóthruns, vita án efa ekki að hnullungurinn sem er sagður hafa fallið úr lofti ganganna, hafði í raun verið settur þarna til hliðar af verktaka sem var að gera við göngin. Hann flutti grjót og hnullunga sem verið var að höggva og hreinsa úr göngunum en setti þá til hliðar á meðan hann var aðathafna sig við þessar framkvæmdir. Þeim sem fóru um göngin var gert þetta ljóst.
Engu að síður fæ ég texta á borð við þennan: „...Maðurinn á myndinni er 187 cm svo þú sjáir hversu stórt berg þetta var. Komdu og keyrðu í gegnum þessi göng og yfir fjallveginn á hverjum degi og krossaðu fingurna í hvert skipti sem þú ferð í gegn um að næsti svona hnullungur lendi ekki á þér." Annar segir: „Þarf frekar vitnanna við um hve lífshættuleg göngin eru."... Og enn eitt bréf...

18. Desember 2011

ER HĆFA...?

Er hæfa í því að þú styðjir tillögu Sjálfstæðisflokksins að draga til baka kæru Alþingis á hendur Geir Haarde?....
Kristján Sig. Kristjánssson

18. Desember 2011

ELDMÓĐUR OG VISKA

Magnús og Andres
...Og þá að þætti Hönnu G. Sigurðardóttur. Hann fjallaði um ræðumennsku fyrr og nú. Víða var leitað fanga, rætt við uppfræðara í ræðumennsku, vitnað í gamlar ræður og spilaðir bútar. Þar á meðal ræður tveggja manna sem mér þóttu afbragðsgóðar og í reynd vera ágæt andleg vítamínsprauta í skammdeginu. Önnur var áramótaávarp Andrésar Björnssonar, fyrrum útvarpsstjóra, á gamlárskvöld árið 1970. Hin var barátturæða Magnúsar Björns Ólafssonar, blaðamanns á Austurvelli, 24 janúar 2009, í hámarki Búsáhaldabyltingarinnar. Báðar ræðurnar voru afbragðsgóðar, sem áður segir, hvor með sínu sniði...

18. Desember 2011

HVATNING

Ég bið þig að vera níðsterkur ráðherra og að láta stöðva öll nauðungaruppboð strax enda eru þau ólögleg. Ég bið þig að vera níðsterkur ráðherra og að láta stöðva Vörslusviptingu ehf starfsseminni sinni og að láta loka þeim. Ég bið þig að vera níðsterkur ráðherra og að beita þér fyrir því að Ríkisstjórn Íslands slíti stjórnmálasambandi við Ísrael. Ég bið þig að vera níðsterkur ráðherra og að beita þér fyrir því að Viðskiptabankastarfssemi og Fjárfestingargammbl verði aðskilið. Ég bið þig að vera níðsterkur ráðherra og að ....
Jón Þ

17. Desember 2011

TILGANGURINN HELGAR EKKI MEĐALIĐ!

Sá viðtal í BBC við Christopher Hitchens sem dó í gær. Þar sagði hann: "having an honourable motive is no excuse for betraying your principles". (Góð markmið réttlæta ekki svikin grunngildi, eða kannski: Tilgangurinn helgar ekki meðalið).
B.Ö.

17. Desember 2011

DEILUR BITNA Á SAKLAUSUM

...Þetta má koma í veg fyrir einfaldlega með því að gefa sýslumanni og dómurum heimild til þess að úrskurða um sameiginlega forsjá og umgegni og ekki sýst LÖGHEIMILI! Því í dag hefur faðirinn engan rétt til aðstoðar við uppeldi barnanna vegna einmitt lögheimili þeirra! En lögheimili barns er ekki hægt að breyta nema með samþykki BEGGJA foreldra! Og í þessu tilfelli mun móðirin aldrei samþykkja breytingu, þar sem hún hefur fínar tekjur af því að halda lögheimili barnanna hjá sér. Hér þarf einhver að hafa heimild til þess að ganga á milli og sjá til þess að jafnt SÉ jafnt. Að réttlætinu sé fullnægt, barnanna vegna! Með von um að Lögheimilisreglur barna verði ýtarlega skoðaðar.
Kv. Borghildur

15. Desember 2011

ERLEND UMFJÖLLIN

Umfjöllun í fjölmiðlinum ntdtv.com um Grímsstaðamálið http://www.youtube.com/watch?v=xnPA62ggvww Wiki um fjölmiðilinn http://en.wikipedia.org/wiki/New_Tang_Dynasty_Television
abc

15. Desember 2011

AĐ STANDA Í LAPPIRNAR

Takk fyrir Ögmundur, haltu áfram að standa í lappirnar. Við þurfum fólk eins og þig.
Magnús Þór Indriðason

15. Desember 2011

EKKI MEĐ DÓMSÚRSKURĐ

Starfsemi vörslusviptingafyrirtækja er ólögleg það liggur fyrir. Ég krefst þess að þú látir loka vörslusviptingafyrirtækjunum og leggir starfsemi þeirra niður. P.s. Þessir aðilar eru aldrei með dómsúrskurð uppá vasann þegar þeir fara á stjá.
K.v. Jón Þ.

14. Desember 2011

SAMMÁLA UM GRÍMSSTAĐI, EKKI FANGELSI

...Ég vildi færa þér bestu þakkir fyrir að standa fastur á úrskurði þínum og ráðuneytismanna sem réttri og einnig því að lögin yrðu haldslaus til framtíðar litið. Þetta er erfiður biti en samt réttur og ég gleðst yfir því að Björn Bjarnason fyrrum ráðherra skuli veita þér fullan stuðning við ákvörðunina. Ég er hinsvegar afar ósáttur við þá ætlan að byggja nýtt fangelsi á Hólmsheiði fyrir milljarða ...
Þór Gunnlaugsson

14. Desember 2011

SEGJUM OKKUR ÚR EES!

Nú er kominn tími til að segja sig úr EES, enda hefur sá samningur ekkert haft í för með sér annað en óhamingju...
Björn Jónasson

13. Desember 2011

ŢÖKK!!!

...Það verður að nema burt svokallaða meginreglu sem ráðamen telja sig geta farið eftir, að aðeins þegnar EES megi kaupa land og náttúruauðæfi á Íslandi, sem er algjör fyrra!!! Ég veit Ögmundur, að ég tek djúpt í árina þegar ég segi sannfærður og heilshugar, að eina von íslensku þjóðarinnar sé að við göngum strax úr EES, annars er aðeins um tímaspursmál að ræða hvenær íslenska þjóðin tapar landi sínu og náttúruauðæfum og þar með sjálfstæði sínu, þjóðlegum ákvörðunarrétti og þar með tilveru sinni! Ögmundur, þessi ferill blasir við okkur! Ögmundur, það má segja að við höfum unnið síðustu orrustu, en stríðið sé óunnið!
Ég get vel ímyndað mér að...
 Helgi Geirsson

13. Desember 2011

RÉTT AĐ NEITA!

Við þökkum þér fyrir að neita kínverjum um að kaupa lönd á Íslandi.
Ásdís Gísladóttir og Sigurður Kristinsson

13. Desember 2011

EKKI SELJA LANDIĐ

Vil þakka þér fyrir að selja ekki landið okkar.
Jón Kjartansson

13. Desember 2011

LÍFEYRISSJÓĐIR AXLI ÁBYRGĐ!

Villi og Gylfi
...Eftir 1. janúar 1997 eru opinberu sjóðirnir algerlega háðir iðgjöldum sem inn í þá eru greidd. Ef hins vegar iðgjöldin rísa ekki undir réttindunum þarf að hækka þau og síðan hugsanlega lækka aftur þegar betur árar. Hægur vandi er að hafa nákvæmlega sama hátt gagnvart almennu sjóðunum. Það vilja hins vegar hvorki Gylfi né Vihjálmur; þeir leggja meira upp úr að varðveita kaupmátt launa en lífeyris. Það er sjónarmið sem er málefnalegt og virðingarvert en þetta er hins vegar val en á ekki að vera það væl sem þeir temja sér, Gylfi og Vilhjálmur, þegar lífeyrismál eru til umræðu. Þá er það ósanngjarnt að reyna stöðugt að grafa undan opinbera lífeyriskerfinu...

13. Desember 2011

HVATNING TIL DV

Oj og mill. dv
DV...aksturspeningar voru í hugum sumra fyrirspyrjanda á þingi og í fjölmiðlum ígildi spillingar. Menn væru að fá dulbúnar tekjur í formi aksturspeninga. Hvar skyldi þá meint spilling hafa verið mest? Að sjálfsögðu hjá Vegagerðinni. Þar unnu hlutfallslega flestir starfsmenn við að aka um vegina! Auðvitað var þessi umræða glórulaust rugl. Í stað þess að brjóta viðfangsefnið til mergjar og kanna hvar verið væri að greiða fólki aksturspeninga án útlagðs kostnaðar, með öðrum orðum, hvar verið væri að hygla fólki, þá voru allir settir undir sama hatt. Þeir sem óku um á eigin bílum, borguðu eldsneyti og allan kostnað en fengu það síðan endurgreitt, voru sagðir njóta óeðlilegra kjara...

12. Desember 2011

EKKI HĆGT AĐ KAUPA Í KÍNA!

Það hefur enn ekki komið fram svar við spurningu sem brennur á mér í neinum fjölmiðli. Ef ég sem Íslendingur hefði nægt fjármagn gæti ég þá farið til Kína og keypt upp stór landssvæði eða myndu Kínversk lög stöðva mig ?
Sigurður H. Stefnisson

12. Desember 2011

RÉTT ÁKVÖRĐUN

Ég lýsi yfir ánægju minni með ákvörðun þína varðandi Grímsstaði á Fjöllum. Ég tel þig hafa tekið rétta ákvörðun.
Kristbjörg Þórisdóttir

12. Desember 2011

EKKI AĐ EILÍFU!

...Mig langar að þakka þér fyrir að forða okkur frá því að selja Kínverjum sem svarar einu þjóðríki (Möltu) af okkar hálendi. Ég spyr hvað er þetta fólk að hugsa? Þessi maður kann að vera vandaður ljóðelskandi nátturuverndarsinni en hann lifir ekki að eilífu! ...
Ágúst B Herbertdóttir, Hjúkrunarfræðingur

12. Desember 2011

UM TVO FINNBOGA

Sæll, flottur pistill og takk fyrir komuna á opnun sýningarinnar. Smá leiðrétting, Finnbogi Hermannsson, faðir minn er ekki ein af fyrirsætum sýningarinnar eins og segir í myndatexta, en aftur á móti er Finnbogi Örn barnabarn Finnboga Hermannssonar ein af fyrirsætum sýningarinnar. Finnbogi Hermannsson er er enn ekki talinn fatlaður, en ...
kv. Auður, dóttir Finnboga H og móðir Finnboga Arnar

11. Desember 2011

ŢAĐ ER ŢJÓĐFÉLAGIĐ SEM ŢARF Á VIĐGERĐ AĐ HALDA ...

Mannrettindi forsida
                                                                                       Mynd af bókarkápu.
Í gær var Mannréttindadagur Sameinuðu þjóðanna. NPA miðstöðin sá til þess að dagurinn reis undir nafni með opnun glæsilegrar ljósmyndasýningar í Austurstræti. ... NPA er skammstöfun fyrir notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin skipuleggur og hefur forgöngu um þessa þjónustu og er hún samvinnufélag fatlaðs fólks... Framkvæmdastýra NPA miðstöðvarinnar er Freyja Haraldsdóttir og var hún ein ræðumanna á útisamkomunni á Austurstræti í gær... Það var einmitt Embla sem sagði í ræðu sinni að á fatlað fólk ætti ekki að líta sem einstaklinga sem þyrftu á viðgerð að halda. Það væri hins vegar þjóðfélagið sem væri bilað og þyrfti að laga svo það tryggði öllum þegnum sínum fullan rétt! Á þessa leið...

11. Desember 2011

HIĐ ŢRÖNGA OG HIĐ VÍĐA SJÓNARHORN

ein -vidsyn
... Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ sagði í RÚV á föstudag að íslenskt launafólk hefði getað staðist hrunið ef við hefðum haft sterkan gjaldmiðil. Með öðrum orðum, þótt bankakerfið (og þá væntanlega einnig lífeyrisskerfið) hryndi, þá væri hagur launafólks tryggur svo lengi sem gjaldmiðillinn væri traustur! Og Gylfi og Ólafur Darri, hagfræðingur ASÍ, hömruðu síðan saman á því að evran væri lausnarorðið. Undarleg tímasetning miðað við hvernig komið er fyrir evrunni! Þar fyrir utan virðist sjónarhorn þeirra ASÍ manna æði þröngt, alla vega borið saman við sýn Nóbelsverðlaunahafans í hagfræði Josephs Stieglitz....

11. Desember 2011

VIĐ HÖFUM REYNSLUNA!

...Styð þig 100% í að hafna kaupum kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Það á alls ekki að leifa útlendingum að kaupa jarðir á Íslandi. Ef þú hefðir samþykkt þessi kaup þá væri búið að missa tökin á þessum málum endanlega. Við höfum reynslu af kaupum Íslendinga sem stofnuðu einhver skúffu fyrirtæki og lugu hér út peninga sem skipta hundruðum miljóna til að kaupa upp jarðir út um allt land sem endaði síðan í fanginu á bönkunum og almenningur verður trúlega að ...
 Ólafur Hallgrímsson

11. Desember 2011

ŢÖKK

Ögmundur : Haf þökk fyrir góða frammistöðu í Grímsstaðamálinu.
Magnús Marísson

10. Desember 2011

LAND ER MEIRA EN EIGN

Þakka þér fyrir Ögmundur! Engin ein kynslóð hefur rétt til að selja landið fyrir stundargróða. Okkur ber að gæta þessa lands og skila því áfram til komandi kynslóða. Eins og ríki óðalseigandinn segir í breskum framhaldsþáttum sem nú eru sýndir á RUV "I alone am not the owner of Downton - only the custodian for generations to come". Enn og aftur ....
Margrét

10. Desember 2011

STUNGIN TÓLG

...Veit um mann í Venesúela sem vill kaupa Breiðafjörð. Þá eru samtök í Kólumbíu sem vilja fala Þjórsárver fyrir ríflega upphæð. Heyrst hefur um áhuga á Vestfjarðarmiðum og hótelkeðja í Pétursborg sýnir Herðubreið vaxandi áhuga.
Jóhannes Kristjánsson

10. Desember 2011

HVERGI HVIKA

Hafðu hugheilar þakkir fyrir ákvörðun þína, Ögmundur. Önnur niðurstaða kom ekki til greina en þurfti bæði kjark og heilindi við sannfæringu sína til að hvika hvergi.
Jón Örn Marínósson

10. Desember 2011

AĐ SELJA Í BÚTUM

Takk fyrir að selja ekki landið í bútum.
Sigurður Ólafsson

10. Desember 2011

ALLIR HUGSANDI MENN

Viturleg ákvörðun. Eins og vænta mátti af þér, Ögmundur, tókstu viturlega ákvörðun eftir ítarlega athugun á málinu, að hvorki væri leyfilegt né skynsamlegt að selja útlendingi 300 ferkílómetra lands. Vonandi styðja þig allir hugsandi landsmenn.
Tómas Helgason

10. Desember 2011

FYRIR OPNUM TJÖLDUM

Það er gott að sjá framkvæmdavaldið vinna vel og faglega, fyrir opnum tjöldum þar sem fulltrúar löggjafarvaldsins vilja hafa skýr lagaákvæði að engu. Haf þökk fyrir Ögmundur.
Ólafur S. Andrésson

10. Desember 2011

Í HEIĐURSFLOKK!

Nú verð ég að segja það sama og áður hefur verið sagt: Loksins, loksins. Já, loksins hefur íslenskur ráðherra staðið í báða fætur gegn erlendri ásókn í landið okkar, með gylliboðum um gull og græna skóga. Auðvitað er það dálítið skrýtið að þakka fyrir að farið sé að lögum. En svo oft fram að þessu hafa jafnvel landslög verið brotin til að þóknast erlendu valdi. Já, erlendu auðvaldi. Hvað ef þessum Kínverja hefði verið seldir þessir 300 ferkílómetrar af landinu okkar? Hefði þá verið hægt að ...
Jóhann B. Sveinbjörnsson

10. Desember 2011

GOTT!

Vel af sér vikið, Ögmundur. Það er víst ekki allt undir sólinni falt fyrir fé.
Jónas Knútsson

10. Desember 2011

HEFUR SAMFYLKINGIN EKKI FYLGST MEĐ?

Ég vildi aðeins lýsa einlægum stuðningi mínum við þig varðandi ákvörðun þína og ráðuneytis þíns að selja ekki þessu kínverska hlutfélagi og aðaleiganda þess, en þar að baki er auðvitað kínverska ríkið, landið að Grímsstöðum. Ég var sjokkeruð að heyra viðbrögð þingmanna Samfylkingarinnar og einnig forsætisráðherra og ráðherra ferðamála Katrínar Júliusdóttur, auk fyrrum samgönguráðherra. Ég get ekki skilið hvað Íslendingar eru annaðhvort heimskir eða illa upplýstir um Kínverja og hvernig ...
Linda Ragnarsdóttir

9. Desember 2011

HVERNIG LOSNA MÁ VIĐ SIĐBLINDA STJÓRNMÁLAMENN

...Samfylkingin sem lengi hefur verið flokkurinn minn talar mikið um erlendar fjárfestingar þessa dagana. En það fer lítið fyrir greiningu. Er það virkilega svo að það skipti litlu máli hvað býr að baki og í hverju er fjárfest. Er virkilega ætlast til þess að við landsmenn bjóðum velkominn hvaða Trójuhest sem fellur undir hugtakið erlendur fjárfestir? Sölumenn erlendrar íhlutunar tala um ljóðskáld, náttúrufegurð og hjálpsemi. Tillaga mín er þessi...
Sigurjón Mýrdal

9. Desember 2011

ENGIN SKAMMTÍMA-SJÓNARMIĐ!

...Við verðum að sýna fyrirhyggju og passa upp á allt sem að við eigum. Sérstaklega núna. Við Íslendingar erum svo fá, að það tæki ekki langan tíma fyrir okkur að verða leiguliðar í eigin landi. Vona svo innilega að eignarhald okkar á Íslandi verði áfram í okkar eigu en ekki selt til útlanda, eins og margir vilja. Jú þetta er landið okkar.
Guðmundur Davíð Gunnlaugsson

9. Desember 2011

„ÓŢARFLEGA MEIĐANDI"?


Í gærkvöldi var mér borin stefna á heimili mitt frá Hells Angels og einum forsprakka þeirra hér á landi þar sem samtökin annars vegar og einstaklingurinn hins vegar krefja mig um samtals fjórar milljónir króna, tvær milljónir króna - hvor um sig -  í skaðabætur fyrir ummæli sem þeir telja vera „ósönn og óþarflega meiðandi." Eftirfarandi er úr stefnunni...

8. Desember 2011

1% AF ÍSLANDI UNDIR HÓTEL?

Þakka þér fyrir Ögmundur, að stöðva vitleysuna varðandi Grímsstaði á Fjöllum. Það er fráleitt að menn þurfi að eignast 1% Íslands til að hefja hér hótelrekstur.
Sigurður Böðvarsson, læknir

8. Desember 2011

FORDĆMI SEM EKKI VĆRI KOMIST FRAMHJÁ

Þú átt heiður skilinn, Ögmundur, fyrir að hafna erindi Nubos um að fá að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Mér finnst lögin skýr og ef þú hefðir orðið við erindinu væri ekki hægt að neita neinum, sem vildi kaupa jarðnæði hérlendis, um eitt eða neitt nema með því að brjóta reglu jafnræðis...
Guðvarður

8. Desember 2011

ARFLEIFĐ BARNA OKKAR

Ég vil þakka þér innilega fyrir þessa ákvörðun að fara eftir lögum í Grímsstaðarmálinu. Þú ert betri stjórnmálamaður og sannari fyrir vikið. Landið okkar er lítið en auðugt af því sem verður eftirsóknavert í nánustu framtíð, stöndum því vörð um þann auð. Skyndigróði og skyndiákvarðanir er skammgóður vermir þegar hugsað er til langs tíma, og ættu stjórnmálamenn hafa í huga hverskonar ...
Jenný Þorsteinsdóttir

8. Desember 2011

OG LEYNILEGA...

Vaxtagjöld ríkisins eru tæpir áttatíu milljarðar. Það eru 20% allra gjalda ríkisins. Alveg einsog í fyrra. Hver ákveður vaxtagjöldin? Þau eru ákveðin á fimm manna fundum. Leynilega. Til hamingju ...
Hreinn K.

8. Desember 2011

SELJUM EKKI UNDAN OKKUR JÖRĐINA!

...Það er mjög óviðkunnanlegt að hlýða á samfylkingarþingmenn blása í fjölmiðlum um það að ekki þurfi að fara að lögum í þessu máli, ætli þeim finnist þá að það sé óþarfi að fara að lögum svona yfirleitt ef það er meira á öðru að græða? Það er vægast sagt slæmt viðhorf og það er örugglega engin sérstök upphefð ef slíkt spyrst til fjárfesta úti í heimi eftir það sem hér gerðist árið 2008. Þeir verða ...
Ásdís Kristinsdóttir

8. Desember 2011

ŢAKKIR

Kæri Ögmundur, Takk fyrir hugrekkið.
Helgi Hrafn Jónsson

8. Desember 2011

VERĐMĆTASTA EIGNIN

Orusta er unnin, en ekki stríðið. Landið okkar er verðmætasta sameign þjóðarinnar og það er EKKI til sölu. Takk fyrir að standa vaktina og taka rétta ákvörðun.
Einar Bragi Indriðason

7. Desember 2011

SÖNNUNINA AĐ FINNA Í HEIĐARDAL

...Ég er ekki stuðningsmaður VG,en styð þig heilshugar í Grímstaðarmálinu. Það á aldrei að selja land,Heiðardals salan sannar það.
A.S. Einarsson

7. Desember 2011

200% SÖNNUNARBYRĐI!

...Þegar hrunklíkan telur vera höggvið nálægt sér er Hæstarétti beitt til að gæta þess að þeir séu látnir óáréttir. Þeir munu óspart klaga til æðri réttar sé minnsti vafi um eitthvað. Hæstiréttur hefur á undanförnum árum gert auknar kröfur til sönnunarbyrðar og sönnun þarf helst að vera 200%! Það er von að ákærur gangi hægt enda á réttlætið allt undir því að Hæstiréttur ...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ

5. Desember 2011

SÍĐASTA GRÁĐUGA BARNIĐ ENN ÓFĆTT!

...Sú ákvörðun að synja þessu erlenda fyrirtæki að kaupa upp nokkuð stóran part af landinu er sönn í ljósi sjálfbærni, hugtak sem er sérstaklega ætlað til að verja hagsmuni komandi kynslóða.
Næst á dagskrá hlýtur að vera að Alþingi sjái til þess að lög um eignarhald þjóðarinnar á landi og öðrum náttúrauðæfum verði styrkt enn frekar og séð til þess að landið verði örugglega áfram í eign þjóðarinnar eftir okkar daga. Þau þurfa að vera afdráttarlaus og þannig úr garði gerð að hvergi verði hægt að efast um þau. Það verður alltaf að finna gróðrapunga sem horfa á...
Sigurður Atlason

5. Desember 2011

NÓG KOMIĐ

...Ég get ekki sagt annað en það að mikið er ég stoltur af því að menn eins og þú standir upp á móti straumnum og segir hingað og ekki lengra. Seljum ekki landið okkar auðmönnum, það er nóg komið af því.
Páll K.

5. Desember 2011

HURĐ SKALL NĆRRI HĆLUM!


Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um stefnu íslenskra stjórnvalda gagnvart erlendri fjárfestingu. Boðuð er grundvallarstefnubreyting að því leyti að í stað þess að opna á erlenda fjárfestingu í orku og auðlindum er áherslan á margbreytileika og nýsprotastarfsemi. Þetta er gott og jákvætt. Það er líka gott og jákvætt að í greinargerð er áhersla á að Íslendingar vilji að orkufyrirtækin og sjávarútvegsfyrirtæki séu í innlendri eign. Að sjálfsögðu er fráleitt að alhæfa um erlenda fjárfestingu. Tvennt þurfa Íslendingar að hafa hugfast að mínu mati. Fyrra atriðið er þetta: ...

4. Desember 2011

SYSTUR TVĆR

Siðleysi og græðgi, systur tvær.
Svört er tungan, beittar klær.
Úr glyrnum illum grimmdar él.
Glúpnar örn við Þursasker.
Hreinn K

4. Desember 2011

HEILBRIGĐ SKYNSEMI BREGST EKKI!

Með þakklæti fyrir skynsamlega ákvörðun varðandi Grímsstaði á Fjöllum. Það á ekki að selja landið til útlendinga, heldur eiga þeir að eiga það sem búa í landinu. Skynsamleg nýtin og búseta haldast í hendur. Heilbrigð skynsemi bregst ekki. Takk kærlega Ögmundur, Guð blessi þig.
Ester Sveinbjarnardóttir

4. Desember 2011

EKKI LÁTA HRĆĐA ŢIG!

Heiður og sómi. Kærar þakkir Ögmundur fyrir rétta ákvörðun. Gott að þú virðir lögin. Láttu ekki Samfylkinguna hræða þig, það eina sem þeir vilja er að gefa Ísland burtu...
Gústaf Adollf Skúlason

4. Desember 2011

ŢAKKIR

Ég er Íslendingur búsett erlendis og er mjög þakklát að salan á landinu til Kínverja gekk ekki i gegn. Ég vona að lögum verði ekki breytt þvi landið er líitð og fólk áttar sig seint a þvi hve krumlan er stór og hve mkill skaði gæti verið hérna fyrir þjóðina. þakkir til þin Ögmundur.
Þórunn M Águstsdottir

3. Desember 2011

EKKI AFTUR TEKIĐ!

...Ég er ánægð með að þú ferð eftir settum lögum en segir ekki að þau séu "börn síns tíma" eins og "sumir" nota óspart ef lög eru þeim eða vinum þeirra í óhag, og komast upp með það! Enn og aftur undrast maður að græðgin heltaki fólk svo, að það sjái ekki augljósar afleiðingar af óðakaupum erlendra fjárfesta á landinu okkar! Við skulum ekki halda að það sé fyrir okkur gert! Það er kominn tími til, þó fyrr hefði verið, að hugsa áður en það er framkvæmt. Við lifum það örugglega af þó við seljum ekki okkar dýrmæta land! Það verður ekki aftur tekið!
Hólmfríður Valdimarsdóttir

1. Desember 2011

HÁRRÉTT!

Hárrétt ákvörðun hjá þér Ögmundur. Þú ert stjórnmálamaður sem hugsar, þorir og getur. Við Íslendingar seljum ekki handritin okkar gömlu, hvað sem kynni að vera í boði eða hefur einhverjum dottið það í hug ? Við getum selt aðgang að landinu rétt eins og að handritunum og leigt það en við seljum það ekki með þessum hætti.
Skarphéðinn P. Óskarsson

1. Desember 2011

LIGGUR Í AUGUM UPPI

Kærar þakkir, Ögmundur, fyrir að hafna því að erlendur auðmaður fái að kaupa Grímsstaði. Það liggur í augum uppi, að hefðir þú samþykkt þetta erindi, hefðirðu tekið lögin úr sambandi og þau í raun og veru orðið gagnslaus og merkingarlaus. Láttu svo ekki þitt eftir liggja í stuðningi þínum við Jón Bjarnason.
Guðvarður

1. Desember 2011

TAKK

Takk fyrir Jón. Ást kæra Ísafold,við viljum ekki selja þig. Takk fyrir Ögmundur og Jón fyrir að vera Íslendingar.
Viðar Sigurðsson

1. Desember 2011

AĐ LÁTA MANN NJÓTA SANNMĆLIS


...Það breytir því ekki að enginn maður hefur beitt sér af meira afli og meiri innri sannfæringu en einmitt hann gegn styrkveitingum frá ESB. Það á við um málflutning hans í þingflokki VG og í öðrum stofnunum flokksins, á fundum ríkisstjórnar og hvað varðar stofnanir sem undir hans ráðuneyti heyra. Á milli orða og athafna hefur verið fullt samræmi - meira að segja svo mjög að mörgum hefur þótt nóg um! Í frásögn af atkvæðagreiðslu um fjárlög þótti hins vegar greinilega vera færi að veikja Jón Bjarnason, grafa undan trúverðugleika hans. Ég skrifa þennan litla pistil til að segja eftirfarandi...

1. Desember 2011

EKKI SJÁLFSTĆĐ ÁN LANDS!

Takk fyrir þína góðu framgöngu í Nubo málinu, ég heyri ekkert annað en hrósyrði um þína afgreiðslu. Mér finnst ógnvekjandi hvað samstarfsflokkur þinn í ríkisstjórn er einarður í að selja frá okkur landið. Þitt hlutverk í ríkisstjórninni er því enn mikilvægara. Án lands erum við ekki sjálfstæð þjóð.
Kristján Pálsson

1. Desember 2011

HEIĐURSMERKI HRÓSHÓPSINS

Sannast sagna hafði ég gaman af - og þótti heiður af því - að taka á móti heiðursmerki Hróshópsins sem kemur fram í nafni Búsáhaldabyltingarinnar og hrósar fyrir það sem hópurinn telur vel gert. Í stífum norðannæðingi fyrir framan Stjórnarráðið í gær, rétt fyrir ríkisstjórnarfund, var nælt í mig merki og mér færður blómvöndur. Tilefnið var að sýna samstöðu gegn því að Ísland verði selt „fyrir stundargróða". Stundum hafa mér hlotanst viðurkeningar en heiðursmerki Hróshóps Búsáhaldarbyltingarinnar þótti mér einna vænst um. Ávarp fylgir hér með en það var lesið upp í hífandi rokinu við Stjórnarrráðið...

30. Nóvember 2011

FRÉTTASKOT Á EYJU

 Ég var að lesa hinn mæta fréttamiðil Eyjuna og sá þar í greinaflokknum „Orðið á götunni" að þið Árni Þór Sigurðsson flokksbróðir þinn hefðuð hvorki heilsast né tekið tal saman þegar þið „rákust hvor á annan fyrir tilviljun á Kastrup-flugvelli fyrir skömmu"...Um þennan fund ykkar á Kastrup, ef fund skyldi kalla, er vísað í frétt frá miðjum nóvember í sama greinaflokki þar sem fram kemur að Árni Þór hafi fundið þig á Kastrup þegar þín var saknað á þingi. Þar kemur fram: „Um fjarvist Ögmundar Jónassonar var ekki vitað fyrr en til hans sást fyrir tilviljun á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn síðdegis í gær. ... samflokksmaður Ögmundar, Árni Þór Sigurðsson, sá hann tilsýndar á Kastrup-flugvelli síðdegis í gær. ..." Ef mark er tekið á eldri fréttinni má draga þá ályktun að ...
Árni 

30. Nóvember 2011

STUĐNINGUR

Lýsi yfir ánægju og eindregnum stuðningi við málflutning og stjórnmálastarf Ögmundar Jónassonar. Þar fer heilsteyptur, hreinskiptinn og ódeigur baráttumaður lýðræðis, jöfnuðar og velferðar.
Pétur Einarsson,
Akureyri

28. Nóvember 2011

AĐ KOMA AUĐLINDUM ŢJÓĐARINNAR Í SKJÓL


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, alþingiskona, hefur tekið lofsvert frumkvæði með framlagningu þingmáls sem ryður brautina fyrir endurskoðun laga um eignarhald á landi. Hún vill að skorður verði reistar við stórfelldum uppkaupum á landi og vill í því sambandi horfa til sérstöðu vegna umhverfisþátta: „Víðernin eiga að vera í almannaeign," segir hún. Guðfríður Lilja vill jafnframt horfa til þess að fjársterkir einstaklingar, hverrrar þjóðar sem þeir eru, sölsi ekki undir sig margar jarðeignir og stór landsvæði. Hún segir málið ekki snúast um uppruna manna en hins vegar sé þýðingarmikið að halda víðernum í almannaeign og yfirráðum yfir landi og auðlindum innan samfélagsins. Það sé kjarni málsins. Þetta sé í samræmi við viðleitni margra þjóða og ekki síður ástæða til fyrir okkur sem búum við veika auðlindalöggjöf að ...

28. Nóvember 2011

OG FORSETINN SPURĐI...

Ekki hef ég alltaf verið sammála þér, en það er önnur saga. Mikið var ég ánægður með ákvörðun þína í Nupomálinu. Þetta er miklu stærra mál en fólk gerir sér grein fyrir. Mig langar að að segja eina sögu ef ég má. Á árum áður þegar frú Vigdís Finnbogadótir var forseti vildi þannig til að ég kom gjarnan að Bessastöðum í fylgd minna kæru vina i söngkvartettinum Bláa hattinum. Við skemmtum þar um tveggja ára bil við ýmis tækifæri. Eftir á ræddi frú Vigdís gjarnan við okkur um stund. Ein saga frá þeim tíma er ógleymanleg. Hún er á þá leið að...
Jóhann Sigurðsson

27. Nóvember 2011

ENGIR AFLEIKIR

...Málið er nefnilega að það er ígrunduð pólitízk yfirtökulykt í loftinu og hún er vond og mjög erfitt að losna við hana þegar ræturnar hafa verið skorðaðar. Hinn vinsamlegi fjárfestir ætlar sér örugglega ekkert illt, en nýtilkomið, nýkeypt flugmóðuskip kínverja, verður nefnilega staðsett á norðurpólnum. Þaðan verður gott að hafa yfirsýn til beggja handa hægra megin USA og niðureftir liggur Evrópa, í svona stöðu þætti mér gott að eiga Grímsstaði á Fjöllum. Enn einu sinni Ögmundur minn sést að þú leikur engum afleikjum.
Kveðja Óskar K Guðmundsson fisksali.

27. Nóvember 2011

AĐ STANDA VÖRĐ UM SJÁLFSTĆĐI LANDSINS

Við þökkum þér pólítískt hugrekki með því að stand vörð um sjálfstæði lands okkar. Meistarinn sagi."Sá telst glöggskyggn, sem lætur ekki gegndarlausan róg eða útsmognar og sannfærarandi rangfrærlur hafa árif á gerðir sínar. Það má líka segja að sá sjái langt, sem lætur ekki gegndarlausan róg eða útsmognar og sannfærandi rangfærlslur hafa áhrif á gerðír sinar." ....
Ágústa og Kristján

27. Nóvember 2011

MARGIR TILBÚNIR AĐ SELJA ARFINN

...Nú er aðferðafræðin breytt en markmiðin þau sömu. Það er örugglega ódýrara að borga fyrir nýlenduna en að ná henni með hernaði. - Hvort um er að ræða Kínverja, Kanadamenn eða Kaupmannahafnarbúa skiptir ekki máli. Er það ekki annars háttur Kínverja erlendis að koma með eigið vinnuafl sé þess nokkur kostur? Það verður öldugangur og ágjöfin er reyndar þegar hafin. Gott að þú stendur keikur og mátt vita að margir eru mjög sáttir.
Rósa Eggertsdóttir

27. Nóvember 2011

RÁĐHERRA GETUR SNIĐGENGIĐ LÖG!

Niðurstaða Innanríkisráðuneytisins í Nubo-málinu er rétt. Lögum var fylgt og ef Alþingismenn eru ekki sáttir við niðurstöðuna þá verða þeir að flytja frumvarp og fá samþykkt lög sem heimila sölu lands til aðila utan EES. Það sem er ga-ga við núverandi lög er að þau heimla ráðherra að sniðganga sig!! Þau heimila ráðherra að "brjóta" lögin. Hvers lags ...
Pétur

26. Nóvember 2011

SKREFI LENGRA MEĐ UMRĆĐUNA!

Ég er stolt og þakklát fyrir þau faglegu vinnubrögð sem beitt hefur verið vegna hugsanlegrar sölu á landi Grímsstaða á Fjöllum í hendur erlends hlutafélags. Mér finnst full ástæða til þess að flytja umræðuna skrefi lengra og huga að tengslum yfirráða þjóða og einstaklinga yfir landi, eignarréttinum, sem hefur skipt sköpum í sjálfstæðisbaráttu.
Sigríður Stefánsdóttir

26. Nóvember 2011

JÚRÓ OG NÚBÓ

Takk Ögmundur minn kærlega fyrir að hafa staðið vaktina fyrir okkur Gunnu mína, sem höfum þraukað hér á landi með börnum okkar í rúm 1000 ár. Við Gunna vorum að ræða málin yfir kaffitárum okkar í morgun, að við bara skildum alls ekki hirðfólkið í Hruna sem væri sí og æ með sinn stundar-óða gleðskap, sem endaði alltaf með ósköpum, en sendu svo okkur Gunnu minni jafn-harðan reikninginn. Og það sem er jafnvel nöturlegra, er að hirðfólkið í Hruna er úlfur í sauðargæru, því það ...
frá Jóni og Gunnu, ábúendum að Þúfu.

26. Nóvember 2011

HUGSUM TIL LANGS TÍMA!

Þakka þér fyrir að hafa tekið afstöðu með, hvað eigum við að segja, lýðveldinu í ákvörun þinni varðandi sölu á Íslandi til útlendinga. Með lögum skal land byggja. Verulega ánægður með þig nú einsog oft áður. Mér líkar sjálfstæði þitt. Verst að geta ekki kosið þig, þú afsakar. Trúi því nefnilega að ...
Guðjón

26. Nóvember 2011

ŢAKKIR

Sæll, vil bara þakka þér fyrir mína hönd, bróðurs, foreldra og föðursystur, fyrir að taka að okkar mati rétta ákvörðun er varðar sölu á landi til erlendra aðila. Miðað við hvað fjömiðlaumræðan um þetta virðist öll vera frá sjónarhóli fjárfesta, þá grunar okkur að ...
Björn Darri Sigurðsson, Magnús Harri Sigurðsson, Ásdís Magnúsdóttir, Sigurður Björnsson og Gróa Björnsdóttir

26. Nóvember 2011

HEIMSKUR TRÚĐUR

... Kominn á lista yfir heimskustu stjórnmálamenn í sögu Íslands. Gerðu sjálfum þér greiða hættu hjá VG og farðu í Besta Flokkinn. Passar vel inn þar sem trúður.
Einar Sigurjónsson

26. Nóvember 2011

ŢÁTTASKIL

...En það verða mikil þáttaskil í 1000 ára sögunni ef við nú seljum landið okkar í pörtum fyrir hæstbjóðendur." "Í þúsund ár höfum við glímt við landið og náttúruöflin og komist ágætlega af. Á nokkrum árum töpuðum við glímunni við fjármálaöflin, og nú er úr okkur allur vindur. Hjá þjóð sem hefur byggt styrkleikann sinn á smæðinni og kunnáttu á veikleikum, en ekki stærðinni og græðginni. Hjá þjóð sem vill vera gestgjafi en ekki þiggjandi og leiguliði í eigin landi...
Vilhjálmur Ari  Arason

26. Nóvember 2011

FÖRUM VARLEGA

Ég skrifaði þér fyrir margt löngu síðan þegar þú sagðir af þér ráðherradómi vegna skoðana þinna á þeim tíma. Nú finnst mér aftur tilefni til að rita bréf þar sem ákvörðun þín eða þinna starfsmanna um umsókn kínverjans vegna þessara umdeildu viðskipta með landsvæði til útivistar o.fl. var synjað. Ekki ætla ég að leggja mat á hvort þú hefur rétt fyrir þér eða aðrir sem tjáð sig hafa um þetta mál, en mig langar til að segja frá því sem upplifði í ferð minn til Cabo Verde, öðru nafni, Grænhöfðaeyjar, fyrr á þessu ári. Capo Verde er eins og flestir vita gömul nýlenda frá Portugal og lutu þeirra stjórn. Við vorum svo lánsöm að ...
Þorsteinn Pálmarsson

26. Nóvember 2011

RÉTT ÁKVÖRĐUN

Ögmundur ég Þakka Þér fyrir að taka rétta ákvörðun i Kína málinu. Landið er okkar og á að vera okkar og afkomenda um alla framtíð. Getur Kína ekki fengið lóðir til 99 ára fyrir hótel og golfvöll?
Jón Ari Sigurjónsson

26. Nóvember 2011

ŢAKKIR

Þakka þér fyrir Ögmundur að stöðva vitleysuna á Grímsstöðum á Fjöllum. Það er auðvitað fráleitt að menn þurfi að eignast hundraðshluta af Íslandi til að geta farið út í hótelrekstur.
Sigurður Böðvarsson, læknir

25. Nóvember 2011

ŢAKKIR

Ég vil þakka þér Ögmundur fyrir að bjarga Samfylkingunni, ríkisstjórninni og þjóðinni allri frá þeirri niðurlægingu sem yfir vofði. Ég hef talið mig vera frjálslyndan vinstri mann en það að selja Ísland er auðvitað ekki frjálslyndi. Ekkert hagvaxtarfjas eða margfeldisáhrifafjas ætti að geta villt mönnum sýn í því efni. Og hvers eigum við að gjalda sem höfum fundið samleið með Samfylkingunni þegar annað ...
Sigurjón Mýrdal

25. Nóvember 2011

EKKI HEILL TIL SKÓGAR

...Ég held að þú gangir ekki heill til skógar. Að vilja banna öllum útlendingum að kaupa eignir hér á landi ber ekki eingöngu vott um kynþáttahatur heldur er það einnig brot á stjórnarskrá, þar sem öll mismunum á forsendum kynþáttar sé bönnuð. Skora á þig að segja af þér strax !
Hermundur Sigurðsson

25. Nóvember 2011

EKKI Í ANGIST AUGNABLIKSINS!

Ég hef miklar áhyggjur varðandi þessa sölu ef af verður. Ég hef alltaf kosið Samfylkinguna en verð að segja að ég fæ hroll þegar ég heyri í ráðherrum þeirra og þingmönnum, það er hægt að slá ryki í augu allra með skjalli, vinahótum og og vinatengslum. Landið okkar er það dýrmætasta sem við eigum, það er ein af auðlindum þjóðarinnar og á að þjóna íbúum þess. Ég hvet þig til að standa föstum fótum og hafna undanþágum sem ganga út á það að sá sem ...
Elsa D Gísladóttir

25. Nóvember 2011

EKKI SELJA!

Ég vil skora á þig Ögmundur að veita ekki heimild til sölu á landeigninni að Grímsstaði á Fjöllum þannig að hún verði í einkaeigu erlendra aðila um ókomna tíð, og í óvissu um hvaða hag og not arfleiðendur kunna að hafa af landinu í framtíðinni. Veita mætti ...
Óskar Torfi Þorvaldsson

25. Nóvember 2011

FORDĆMI

Hvernig er það með ráðamenn og almenning í þessu landi, er virkilega enginn búinn að fatta plottið hjá þessum kínverja sem vill kaupa Grímsstaði á fjöllum. Hann kemur hér og býður óeðlilega hátt verð fyrir einskisnýta jörð uppá öræfum undir því yfirskyni að byggja Hótel sem auðvitað verður aldrei byggt enda ef hann myndi byggja þarna hótel væri hann kjáni. Um leið og búið er að selja honum Grímsstaði er búið að gefa fordæmi og gera okkur ómögulegt að neita öðrum ( kínverjum ) um að kaupa hér ...
Sigurður H. Stefnisson

24. Nóvember 2011

SAMRÁĐSVETTVANGUR TRÚFÉLAGA FAGNAR FIMM ÁRA AFMĆLI


Fimm ár eru liðin frá því settur var á laggirnar samráðsvettvangur trúfélaga í Íslandi en aðild að honum eiga 13 trúfélög á Íslandi, allta frá Ásatrúarfélaginu til þjóðkirkjunnar. Haldið var upp á afmælið í Ráðhúsi Reykjavíkur með dagskrá þar flutt voru erindi og ávörp, sungin trúarljóð og kveðnar rímur.
Eftirfarandi er ávarp mitt á afmælisfagnaðinum...

24. Nóvember 2011

EVRÓPURÁĐIĐ OG RÉTTINDI BARNA


...Þessi sáttmáli á sér nokkurra ára sögu. Upphafið var reyndar á ráðstefnu á sama stað og nú, í Mónakó, en þar var stefnan mótuð árið 2006. Árið eftir var gengið frá sáttmála utan um þessi stefnumið í Lanzarote á Spáni og er hann því iðulega nefndur Lanzarote-sáttmálinn. Fyrir Íslands hönd var  skrifað undir 4. febrúar 2008 og hefur síðan verið unnið að því að fullgilda sáttmálann með viðeigandi lagabreytingum. Ég hef nú kynnt í ríkisstjórn frumvarp sem sem styrkir réttarstöðu barna gagnvart ofbeldi í samræmi við sáttmálann. Er þar meðal annars kveðið á um ...

24. Nóvember 2011

TĆKNIN OG LÝĐRĆĐIĐ


Á fimmtudag og föstudag í síðustu viku sótti ég mjög áhugaverða ráðstefnu í Poznan í Póllandi um rafræna stjórnsýslu. Ráðstefnan var á vegum Evrópusambandsins með aðkomu EFTA-ríkjanna. Auk mín tóku þátt í ráðstefnnni fyrir Íslands hönd sérfræðingar frá Forsætisráðuneyti, Fjármálaráðuneyti og Efnahags- og viðskiptaráðuneyti og frá Þjóðskrá Íslands og Tryggingastofnun. Í þessum hópi var Guðbjörg Sigurðardóttir sem haldið hefur utan um málaflokkinn af hálfu Stjórnnarráðsins en ásæðan fyrir minni setu á ráðstefnunni er sú að málefni upplýsingasamfélagsins eru nú að færast undir Innanríkisráðuneytið. Á ráðstefnunni kom fram að...

23. Nóvember 2011

Grímsey - Grímsstađir

Gleðilegt er að sjá hve margir eru farnir að tjá sig um Grímsstaði á Fjöllum á heimasíðu þinni. Það virðist ennþá vera fólk á Íslandi sem er ekki sama um land og þjóð. En það sorglega við þetta allt saman er, að það er ekki sama hver er í því embætti, sem þú ert nú í. Haft er eftir alþingismanni samfylkingarinnar að hann hafi sagt: „Veitir okkur nokkuð af því að fá þessar tekjur?" Ég er ekki viss um að maðurinn geri sér grein fyrir alvöru málsins og því segi ég enn og aftur að ekki er sama hver gegnir þínu embætti...
Sigurjón í Hamraborginni 

23. Nóvember 2011

VANDLIFAĐ

...Mér verður hugsað til þess þegar ég hlustaði á fortöluorð þín þegar þú varst í einu af „notendahlutverkum" þínum sem formaður BSRB og losa þurfti Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undan óþægindum sem réttlætisbarátta samvisku minnar og vinnufélaga minna hafi kostað. ...Nú hefur „fólkið" náð völdum, bæði í borg og ríki. Og hvað gerist? Allir sem einn hoppuðu kjörnir fulltrúar í hlutverk „óvinarins". Hvert einasta möppudýr og þau vondu öfl sem mikilvægt var að berja niður í eitt skipti fyrir öll eru núna andsetin af fólki sem er útbelgt af heiðarleika, samúð, samvisku og kærleika. Við hin sem gerðum ekkert af okkur nema að „gera rétt" verðum gleymd í kærleika „óspilltrar jarðarinnar" af því að við höfum hvorki þroska né skilning fyrir alla þessa fádæma visku.
Jóhannes Gunnarsson, vegfarandi

22. Nóvember 2011

FRAMTÍĐARSÝN

Nokkuð er um það að fólk álíka öfgafullt og ég sendi Ögmundi póst vegna Grímsstaða á Fjöllum. Okkur skortir tilfinnanlega framtíðarsýn og skiljum trauðla hvað það þýðir að vera hluti af frjálsu alþjóðlegu hagkerfi. Við leyfum okkur meira að segja að gera upp á milli fjárfestingakosta sem er auðvitað firra. Hvort útlendingur fjárfestir í atvinnulífi hérlendis eða kaupir jörð sem er stærri en höfuðborgarsvæðið á einn milljarð er auðvitað aukaatriði. Og hver ætti svo sem að hafa áhyggjur af því að ógerningur er að greina hvort hér sé um einstakling að ræða eða fjölmennasta ríki heims að fara ...
Sigurjón Mýrdal

21. Nóvember 2011

EKKI SELJA!

...Sú staðreynd gefur okkur meðal annars gildar forsendur til að ætla að eignir kínverskra þegna á Íslandi séu eða geti orðið á hvaða tímapunkti sem er eignir kínverskra stjórnvalda.  Að selja umtalsverðan hluta af landi okkar til kínversks aðila snýst því ekki eingöngu um kaupandann og hvað hann hefur í hyggju á landsvæðinu, heldur hvort okkur Íslendingum þyki eðlilegt að erlent stjórnvald, með svörtustu skrá  sögunnar yfir hrottaleg mannréttindabrot geti mögulega eignast stórbrotin ítök hér á landi...
Þórdís Hauksdóttir

19. Nóvember 2011

RANGT KVEĐIĐ LJÓĐ

Kliðurinn í kampavínsskálum
íslensku ljóðskáldanna
yfirgnæfðI neyðaróp
Liu Xiaobo
í öryggisfangelsinu
utan við Bejing
Hreinn K

19. Nóvember 2011

TIL HAMINGJU!

...Eftir hverju ert þú að bíða? Ætlar þú að vakna einn góðan veðurdag, horfa til baka á ár þín sem Dómsmálaráðherra, og uppgötva að þú gerðir nákvæmlega það sama varðandi ljótu löggumálin og menn í sömu stöðu gerðu varðandi prestamálin forðum daga? Og hvað með öll hin spillingarmálin, sbr rannsóknin á níumenningunum og lögreglumennirnir sem ógnuðu þeim á bar í Rvík...óþarfa líkamleitir upp á stöð..ofbeldismál...Fyrrverandi samstarfsmenn aðal dópsala landsins í den í vinnu hjá Ríkislögreglustjóra...verulega óheiðaleg sölumennska fyrir Taser umboðið á Íslandi...ekkert innra eftirlit...listinn er langur. Og eftir umræðuna nýverið um slæma menntun og laun lögreglunnar, þá hlýtur að vakna spurning um hlutverk Ríkislögreglustjóra ...
Símon

19. Nóvember 2011

GRÍMSSTAĐIR Á FJÖLLUM - ANDLEGT OFBELDI

Ég lít á það sem andlegt ofbeldi gagnvart okkur íslendingum að stjórnmálamenn sem við höfum treyst fyrir fjöreggi okkar sem er landið og auðlindir þess skuli voga sé að bera það á borð fyrir okkur að þeim detti í hug að selja fósturjörðina eða hluta hennar til erlendra ríkisborgara eða ríkja. Oafturkræft. Eg ætla að vísu ekki að í raun detti nokkrum manni í hug að selja landið til erlendra ríkisborgara eða erlends ríkis, við höfum skyldur gagnvart afkomendum því það gæti talist landráð sem er mjög alvarlegt mál.
Ólafur Kr. Sigurðsson

19. Nóvember 2011

HVAĐ EF?

Ég er víst ekki unglingur lengur og kannski orðið heldur langt um liðið síðan þá. En þegar ég ræddi um það atriði sýningarinnar sem mest áhrif hafði á mig þá kom í ljós að einmitt sama atriði virðist ná augum og eyrum fjölmargra unglinga, nefnilega myndræn umfjöllun um áhrif eiturlyfjaneyslu á heilann - um hvernig vímuefni draga úr getu okkar til að framkalla sjálf þau efni sem gera okkur hamingjusöm...

16. Nóvember 2011

GEGN EINELTI: HÉR MÁ SKRIFA UNDIR...


Einelti er þjóðfélagsmein. Mjög alvarlegt mein. Hvar þarf átakið að fara fram svo það megi verða upprætt? Svarið er þetta: Alls staðar. Á heimilinu, í skólanum, á vinnustaðnum, í æskulýðssamtökunum, íþróttafélaginu og verkalýðsfélaginu. Kenna þarf börnum frá æsku að líta á önnur börn sem jafningja og innræta þeim það besta úr siðfræðiboðskap allra alda: Komdu eins fram við önnur börn og þú vilt að þau geri við þig; taktu þá sem þú veist að eiga undir högg að sækja í félagslegu tilliti inn í vinahópinn þinn!
Og munum að ekki er það alltaf svo að hópurinn leggist á hinn veika, eins og hýenur á veikburða dýr. Stundum tekur grimm múghyggjan stefnuna á hinn sterka, ofsækir hann og brýtur hann niður...

14. Nóvember 2011

VÍK FRÁ MÉR FREISTARI!

...Nú, árið 2011, þegar kínverskur stórkapítalisti lætur hringla í gullinu sínu, kikna í hnjáliðunum jafnvel ráðamenn þjóðarinnar, og eru tilbúnir að selja til hans hluta af landinu okkar sem þeim hefur verið trúað fyrir. Einhvern tíma hefði slíkt flokkast undir landráð. Ögmundur, stöndum fast í fætur gegn allri sölu á landinu okkar, hvort sem svæðin heita Grímsey eða Grímsstaðir. Ég veit ekki betur en að íslensk lög banni landssölu til útlendinga. Hlýðum þeim lögum. Segjum eins og sá sem á fjallinu stóð fyrir meira en 2000 árum...
Jóhann

14. Nóvember 2011

UM FLUGVÉL OG FJÁRSVELTI

Finnst þér ekki grátlegt til þess að vita, að hinn fullkomna flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, skyldi ekki hafa nýst til leitar að hinum sænska ferðamanni í síðustu viku þar sem hún var í útleigu í Miðjarðarhafinu? Ég vona að það verði ekki fleiri atvik þar sem hægt verður að spyrja sig hvort mögulega hefði verið hægt að koma nauðstöddum til aðstoðar ef tæki Landhelgisgæslunnar hefðu ekki verið ...
Erlingur A. Jónsson

14. Nóvember 2011

AĐEINS ÍSLENSKIR RÍKISBORGARAR!

...Sem betur fer erum við nánast öll sannir Íslendingar sem viljum landi og þjóð það besta og stöndum vörð um land okkar og menningu. Ég trúi ekki að landið verði selt erlendum ríkisborgara eða erlendu ríki ef svo færi þá snertir það flesta Íslendinga svo sem hjartað væri slitið úr þeim, hver vill bera ábyrgð á því? Ég vil geta þess að ef Grímstaðir á Fjöllum verði selt Kínverja eða kínverska ríkinu að þá er um ...
kynslóðum, við seljum ekki fósturjörðina undan okkur né komandi kynslóðum .
Ólafur Kr. Sigurðsson

13. Nóvember 2011

HVAĐ Á AĐ KOSTA AĐ KAUPA SIG FRÁ LÖGUM?

Ef það er orðin röksemd fyrir því að fá undanþágu frá lögum, að það skapi tekjur, þá ætti að íhuga að leyfa efnuðum brotamönnum að koma hingað og kaupa sig frá refsingum.Gildir það einnig um þá sem stunda mannréttindabrot, misjafnlega ljóðræn. Þeir færu í hóp þeirra sem vilja kaupa sér íslenskt ríkisfang. Hvað kostar að fá undanþágu frá lögum? Er til gjaldskrá um það?..
Hreinn K

13. Nóvember 2011

EKKI SELJA ÍSLAND!!!

...Á hverju hefur hann orðið svo ríkur að geta falast eftir hluta litla landsins? Og hvernig skyldi honum hafa dottið þetta í hug? Er hann að framfylgja útrásarstefnu Kínverja eða eru einhverjir vinir hér heima sem græða á þessu? Nú er ekkert sem heitir, nú bergðumst við af skynsemi ekki skyndi. Við skulum hugsa læra og nýta okkur þessa stöðu sem litla þjóðin okkar er sett í. Verum einu sinni framsýn, þá á ég við ábyrgðina sem þú og við höfum gagnvart íslenskri náttúru. Ég held að hann sé mjög framsýnn. Eru ekki jöklar að bráðna, Norðurpólinn að hverfa og skipaleið að opnast? Auðvitað veit hann hvað hann er að gera. Ekki selja Ísland. Áhugi ráðamanna þjóðarinnar hefur verið ótrúlegur. Hvernig stendur á því að þeim finnist þetta yfirhöfuð vera möguleiki? Erum við enn með sama fólkið í brúnni flokkanna og...
Ragnhildur Birgisdóttir

13. Nóvember 2011

VITA EKKI HVAĐ ŢEIR GERA!

...Reyndu með öllum ráðum sem þú kannt, að sporna við sölu Grímsstaða til útlendinga, sama hvaðan kaupandinn er. Þetta er ein landstærsta jörð Íslands og að hana eigi að hrifsa úr höndum þjóðarinnar er svo óþverralegt að engu tali tekur. Þessir menn sem um þetta mál fjalla á þingi og vilja selja, eru engir föðurlandsvinir, þeir vita ekki hvað þeir gera. Stattu með okkur sem viljum ekki sjá þetta verða að veruleika. Um þetta ætti hreinlega að kjósa.
Edda

13. Nóvember 2011

FEGURĐ

Reynum nú að vera ofurlítið jákvæð í þessu Grímsstaðamáli. Hið kínverska ljóðskáld hefur orðið fyrir áhrifum af mikilli fegurð hérlendis. Bergnuminn er hann tilbúinn að hætta nokkru fjármagni til þess að geta notið hennar til fulls. Sem Samfylkingarmaður hlýt ég að sjá málið í þessu ljósi. Ég reikna fastlega með að Huang Nubo hafi þegar ort ljóð um íslenska ráðamenn sem minna svo á fegurð íslenska vatnsins. Svo tært, svo glært. Þannig fegurð er tilvalið að virkja.
Sigurjón Mýrdal

12. Nóvember 2011

KIRKJUŢING 2011


....Í mínum huga er það grundvallaratriði að allir hafi rétt til þess að velja sér trú, trúarbrögð eða trúleysi. Það er einfaldlega í samræmi við kall tímans - og auðvitað hefði það átt að vera kall allra tíma - að einstaklingar geti valið sér vettvang fyrir trú, mannrækt, tilvistarspurningar og andlega þekkingarleit. Það er staðreynd sem við þekkjum öll, hve gott og sameinandi það er að koma saman og láta minna okkur á hina andlegu vídd lífsins. En sú vídd verður þó aldrei með öllu slitin úr tengslum við hið veraldlega vafstur...

12. Nóvember 2011

ÖĐRUM TIL VIĐVÖRUNAR!

...Það er umfang framkvæmdanna sem mér líst ekkert á og get eiginlega ekki lýst öðru vísi en sem geggjuðum skýjaborgum. Álitsgerðir þær og minnisblöð sem Árni Páll Árnason og ráðuneyti hans hafa látið rigna yfir þig og lekið jafnharðan í fjölmiðla eru í svipuðum dúr, þótt steininn tæki úr með stílbrögðunum um æðarfuglinn og dúninn núna í vikunni, þvílík smekkleysa og tilgerð. Það er engu líkara en Samfylkingarmönnum sé ekki sjálfrátt þegar þetta mál er annars vegar. Ef sú verður raunin að Huang fær að kaupa jörðina og hefja framkvæmdir þá legg ég eindregið til að þú reynir að koma inn í samninginn ákvæðum þess efnis að ef allt fer á hliðina og við sitjum uppi með hálfkarað þriggja hæða, tvö hundruð herbergja hótelskírmsli á miðhálendininu þá verði þeir þingmenn og ráðherrar sem helst beittu sér í málinu skyldaðir til að búa í því viku til hálfan mánuð á ári næstu ...
 Guðmundur J. Guðmundsson

11. Nóvember 2011

EKKI SVO GÓĐIR HÁLSAR


...Íbúar á sunnanverðum Vestjörðum andmæltu tillögum mínum um að sett yrði í forgang að stórbæta fjallavegina um Hjallaháls og Ódrjúgsháls í stað þess að leggja veg um Teigsskóg eða leita annarra lausna á láglendi. Fjallaleiðin þótti mér - og þykir enn fýsilegasti kostur, ef menn á annað borð setja í forgang að hraða úrbótum eins mikið og verða má og ná árangri með sem minnstum kostnaði! Benti ég á að Vegagerðinni hefði tekist bærilega í glímunni við fjallvegi víða á landinu og minnti á Bólstaðahlíðarbrekku, Bröttubrekku og fleiri vegi sem liggja hærra en fyrrnefndir hálsar á Vestfjörðum. En hvað um það, þetta vilja íbúarnir ekki. Alls ekki! Það fékk ég að vita hjá sveitarstjórnarmönnum á samráðsfundum síðsumars og síðan á fjölmennum íbúafundum í Bjarkarlundi og á Patreksfirði. Á sama tíma fékk ég að vita að umhverfisverndarfólk myndi ekki sætta sig við veg um Teigsskóg í Þorskafirði sem margir hafa viljað fara....

11. Nóvember 2011

ÁFRAM EKKERT STOPP!

Þannig hljómaði frægt slagorð Framsóknarmanna, sem litu á hlutverk sitt að skaffa verktökum í flokknum vinnu við ósjálfbærar virkjunarframkvæmdir. Samfylkingin gerði garðinn frægan með ofurtrú á bankabóluna og eru enn við sama heygarðshornið. Sömu ráðherrarr og voru í hrunstjórninni eru enn við völd og einn þeirra fyrrverandi brillerar nú í fyrirspurnartímum Alþingis. Þessir menn hafa ekki breytt um skoðun á neinu, hafa ekki beðið afsökunar á neinu og hafa ekkert skilið. Það er kaldhæðni aldarinnar að sá Samfylkingarmaður ...
Hreinn K

10. Nóvember 2011

Baldur Andrésson skrifar: 14 MILLJARĐA VAĐLAHEIĐAR-BRELLAN

Undirritaður, sérfróður skipulagsfræðingur, hef lagt fram spátilgátu um að þegar gerður yrði upp kostnaður við gerð Martiganga um Vaðlaheiði, hljómi heildarverðmiði á  14.2 milljarða króna.  Sá sami og á Héðinsfjarðargöngum sem gerð voru árin 2006 til 2010. Spátilgátan byggist á að hógvær verði vöxtur á verktakaumbun á verktíma, miðað við fyrra Martiframtakið í Óshlíð eða Metrostavframtakið í Héðinsfirði. (Þeim verkum lauk 2010). Startilboð Martis í gerð Vaðlaheiðarganga er 8.9. ma kr. í verkumbun sem reynslu samkvæmt mun vaxa á verktíma, þó aðeins um helming þess, sem gerðist vegna gerðar Martiganga um Óshlíð,  2008 til 2010. Að auki eru fyrirséð...

10. Nóvember 2011

VERĐA GRÍMSSTAĐIR Á FJÖLLUM HONG KONG ÍSLANDS?

Ég sé hér á síðunni að til eru þeir sem ekki er vel við að landið sé selt undan okkur til erlendra aðila og nefna Kínverja þar sérstaklega. Þeim list illa á manngrúann og stjórnskipan í Kína. Þá langar mig að vita hvort erlendum fyrirtækjum sem reka hér álbræðslur og aðrar álíka forretningar hefur verið selt land sem þau nota undir starfsemi sína. Þeir Íslendingar sem í þéttbýli búa greiða lóðaleigu vegna híbýla sinna, en þeim er ekki gefinn kostur á að kaupa lóðirnar. Ætla Þingeyingar að ....Ef við eigum eð lifa það að sjá á eftir Grímsstöðum á Fjöllum til Kína, þá getum við huggað okkur við ljóðið eftir Nóbelsskáldið þar sem síðasta erindið er þannig...
Sigurjón í Hamraborginni

9. Nóvember 2011

STATTU VÖRĐ UM VÍĐERNIN!

...Ísland er ekki á útsölu, er það nokkuð? Það verður ekki selt fyrir "eitthvað annað" bara af því að Samfylkingin vill það, er það nokkuð? Láttu ekki yfirkjördæmapotara landsins hræða þig. Stattu stoltur vörð um víðerni Íslands. Ég treysti þér...
Hilda G. Birgisdóttir

9. Nóvember 2011

GÓĐ NÝBREYTNI: BEIN ÚTSENDING FRÁ NEFNDARFUNDUM


...Ýmsir höfðu efasemdir um beinar útsendingar af þingnefndarfundum Alþingis. Sjálfum þykir mér þessi nýbreytni lofa góðu, sérstaklega hvað varðar mál sem eru umdeild og hafa gott af því að komast út í þjóðfélagsumræðuna. Þessar beinu útsendingar gera það að verkum að fjölmiðlunum, fjórða valdinu, einsog það er stundum kallað er gert auðveldara um vik að komast í „hráefni" frétta sinna á einskonar hlaðborði. En jafnframt, sem áður segir, fá áhorfendur tækifæri til að meta hvernig hið fjórða vald beitir sér ...

9. Nóvember 2011

INNRÁS

...Hvernig vogarðu þér Ögmundur að þvælast fyrir þjóðþrifamálum. Höfum við efni á að tefja fyrir frumlegri íslenskri nýsköpun. Nú þegar hefur tekist að koma í lóg litlum 300 ferkm af skerinu okkar og vonir vakna um að þetta sé aðeins fyrsta skrefið. Samfylkingin, flokkurinn minn, virðist skilja að hagvöxturinn er fyrir öllu, jafnvel þótt keyra þurfi út í skurð til að örva hann dálítið. En í alvöru Ögmundur - megi skilningsleysi þitt duga vel til að stöðva landráð. Það er með öllu óskiljanlegt ef Samfylkingin sem stjórnmálaafl vill stuðla að öðru eins óhæfuverki og því að opna fyrir sölu á fósturjörðinni.
Sigurjón Mýrdal

8. Nóvember 2011

FRUMKVĆĐI HELGU BJARKAR

...Auk Helgu Bjarkar koma upp í hugann til dæmis Ingibjörg Helga Baldursdóttir, grunnskólakennnari og móðir drengs sem fyrirfór sér eftir einelti og Stefán Karl Stefánsson, leikari, sem steig fram og greindi frá reynslu sinni af einelti. Ég nefni einnig Þorlák H. Helgason, framkvæmdastjóra Olwesusarverkefnisins á Íslandi  og einn brautryðjenda þeirrar nálgunar. Ég nefni Barnaheill sem hafa stutt ungmenni til að stíga fram og verða öðrum gott fordæmi. Ég nefni fjölmiðla sem hafa verið ötulir að vekja athygli okkar á málfninu. Að öðrum ólöstuðum hefur mér virst  DV vera sérstaklega vakandi en þar hafa um allnokkurt skeið birst greinar og viðtöl um þetta þjóðfélagsmein. Einna mest megum við þakka því baráttufólki sem ...

7. Nóvember 2011

HVAR VARST ŢÚ ŢEGAR MAKKAĐ VAR UM ESB?

...Hvar varst þú minn kæri bróðir þegar makkað var á bakvið tjöldin fyrir kosningarnar 25. apríl 2009? Tilefni þess að ég spyr þig er frétt á dv.is, þar sem eftirfarandi er haft eftir Atla Gíslasyni: "„Ég hef nú sannreynt að fyrir kosningarnar vorið 2009 hafi verið ákveðið í þröngum hópi forystu VG og Samfylkingarinnar, næðu flokkarnir þingmeirihluta, að sækja um aðild að ESB og samþykkja Icesave, skilgetið afkvæmi ESB-umsóknarinnar. Sannleikanum var haldið frá mér og ótal fleirum í aðdraganda kosninganna. Ég var afvegaleiddur og afvegaleiddi kjósendur í Suðurkjördæmi. Ég harma það og biðst afsökunar. Umsóknin er ...
Jón Jón Jónsson

6. Nóvember 2011

UM VÖLD OG ÁBYRGĐ Í FJÁRMÁLAKERFI


... En tilefni þessara skrifa minna nú er reyndar ekki ummæli Steinþórs Pálssonar bankastjóra Landsbankans, heldur ágætar vangaveltur Kristins, í lesendabréfi hér á síðunni þar sem hann leggur út af orðum bankastjórans. Kristinn segir m.a.: „Sú skoðun að ekki sé farsælt að ríkið eigi banka á fullan rétt á sér en óneitanlega eru rökin fyrir henni til muna veikari en var fyrir nokkrum árum. Sé litið til sögunnar þá hefur einkaeignarhald á bönkum á Íslandi ekki verið farsælt... Það er rétt hjá bankastjóra Landsbankans að víst getur til þess komið að einstakir stjórnmálamenn komi fram með „furðuleg bréf" eða óheppileg afskipti af bankastarfssemi í eigu ríkisins. En það fer ekki milli mála að enn furðulegri tilskipanir fengu bankastjórar einkabankanna...

6. Nóvember 2011

Í FAĐMI FJALLA-DROTTNINGAR

Í umræðum um möguleika Huangs Nubo á því að eignast jörðina Grímsstaði á Fjöllum virðist sem margir þori ekki að nefna og taka með í reikninginn þær tilfinningar sem samt hljóta að fylgja þessu máli og því fordæmi sem það gefur: kvíða og smán yfir því að útlendingar eignist og ráðstafi hlutum fósturjarðarinnar. Þegar kaupsýslumaðurinn er nefndur er það gjarnan með óttablandinni virðingu af því að hann er ljóðskáld og á íslenska vini, og er þar að auki frá hinu fjarlæga og dulúðuga austri og ætlar kannski bara að gera lítilli þjóð vinar síns einhvern greiða. En mér sýnist hann ekki skilja hvaða sess íslensk víðerni hafa haft í sál Íslendingsins. Enda varla slíks von. Hann hlustar á kreppusönginn og dregur sínar ályktanir. Jafnvel þó að sumir Íslendingar geti ekki beðið eftir að...
Asdís Kristinsdóttir

5. Nóvember 2011

UM FURĐULEG BRÉF OG EIGNARHALD BANKA

Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans vék lítillega að eignarhaldi banka í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ nú á haustdögum. Fram kom hjá bankastjóranum sú skoðun að meirihlutaeignarhald ríkisins í bankanum væri óeðliegt og að hann vissi ekki hvenær hann gæti fengið furðuleg bréf frá stjórnmálamönnum þar sem þeir væru með afskipti af stjórn bankans. Landsbankinn hefur nú frá haustdögum 2008 verið í meirihlutaeigu ríkissjóðs. Opin og frjáls umræða um eignarhald á fyrirtækjum er mikilvæg í okkar samfélagi en óneitanlega samrýmast kveðjur bankastjórans til eigenda fyrirtækisins illa þeim skyldum og venjum sem stjórnendur hlutafélaga og fyrirtækja telja sig almennt setta undir. Steinþór Pálsson er ekki frekar en...
Kristinn

4. Nóvember 2011

SIĐMENNT: ALDREI GENGIĐ Á RÉTT ANNARRA

sidmennt logoÓskir Siðmenntar hafa ekki með neinu móti gengið á rétt annarra til að velja sér trú, trúarbrögð eða trúleysi. Þvert á móti hafa ábendingarnar verið á þá lund að jafna stöðu félaga og þannig einstaklinga sem kjósa sér mismunandi vettvang fyrir mannrækt, tilvistarspurningar og andlega þekkingarleit. Ég nefni þetta hér því að nú er til umsagnar á vefsvæði Innanríkisráðuneytisins frumvarp sem jafnar stöðu lífsskoðunarfélaga og trúfélaga. Í framhaldinu verður frumvarpið lagt fram á Alþingi og er það mín von að...

2. Nóvember 2011

KVEĐJA TIL LANDHELGISGĆSLUNNAR


Í nýlegri skoðanakönnun um viðhorf til opinberra stofnana kom fram að Landhelgisgæslan nýtur meiri virðingar og trausts en allar aðrar stofnanir. Hvers vegna skyldi það vera? Eitt svar er augljóst: Við höfum séð til starfa Landhelgisgæslunnar og vitum hve vel hún stendur sig. Ég held þó að væntumþykjan eigi sér dýpri rætur. Landhelgisgæslan snertir nefnilega taug sem tengir okkur öll saman. Við móttöku varðskipsins Þórs í síðustu viku sagði ég að Landhelgisgæslan væri samgróin íslenskri þjóðarsál. Ef ég reyni að skýra þetta nánar vandast málið. En einhverra hluta vegna vita allir við hvað er átt! Það er mergurinn málsins.Upp í hugann kemur...

1. Nóvember 2011

TIL HEIMABRÚKS?

Fréttablaðið þykir mér vera smátt í sér þegar það gerir í fyrirsögn lítið úr nýafstöðnum landsfundum stjórnarflokkanna. Ályktanirnar eru bara „til heimabrúks" segir í fyrirsögn  blaðsins - til að friða baklandið.
Lítur þú svona á málið Ögmundur? Er svona illa komið fyrir þessum flokkum,  að þeir gefi ekkert fyrir skoðanir almennings? Eða er svona illa komið fyrir Fréttablaðinu? Nema þarna séu einhverjar pólitískar krosstaugatengingar á milli ...
Jóhannes Gr. Jónsson

1. Nóvember 2011

STERK UNDIRALDA Á LANDSFUNDI VG

...Mér þótti líka gott að því skuli hafa verið fagnað að AGS væri farinn. Var satt að segja búinn að fá nóg af öllu þakklætinu í hans garð í Hörpunni á sameiginlegri ráðstefnu Íslands og AGS í aðdraganda Landsfundar VG. Við skulum ekki gleyma því að það var AGS sem bannaði almennar aðgerðir í skuldamálum, og hugmyndafræði  AGS var hvetjandi  til framkæmda utan ríkisreiknings. Ekki gleymi ég heldur áhyggjum AGS af gjaldþrotalögunum nýju. Í skugganum af AGS og ESB athöfnuðu Bretar og Hollendingar sig í Icesave. Aldrei heyrði ég AGS hafa áhyggjur af...

30. Október 2011

HEFUR EKKERT BREYST?

Rakst á eftirfarandi klausu í bloggi eftir Guðmund Hörð. "Samkvæmt frétt Morgunblaðsins árið 2000 valdi Valgerður Sverrisdóttir, þá viðskiptaráðherra, Þorstein til að taka að sér forystu viðræðunefndar bankans í sameiningarviðræðum sem stóðu þá yfir við Landsbankann. Þorsteinn gegndi starfi yfirmanns verðbréfasviðs Búnaðarbankans. Þetta gekk ekki eftir vegna andstöðu bankaráðs Búnaðarbankans við afskipti viðskiptaráðherra af málinu. Þessi litla frétt bendir til að það hafi ríkt sérstakt traust milli ....
Björn Fróðason

30. Október 2011

VIKIĐ FRÁ STEFNU

Frábær grein eftir Þorvald Þorvaldsson í Fréttablaðinu sem mér fannst mjög við hæfi að þú gæfir þér tíma til að lesa. " Þorvaldur Þorvaldsson skrifar: Það er vægt til orða tekið að forysta VG hafi valdið mörgum flokksfélögum og fleirum miklum vonbrigðum undanfarin ár og ekki síst eftir að flokkurinn settist í ríkisstjórn. Í upphafi stefnuyfirlýsingar flokksins segir að hann vilji beita sér fyrir róttækum þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta. Síðar segir....
Hermundur Sigurðsson

29. Október 2011

GEYSIR OG GÓĐ BRETLANDSTENGSL


Á fundum mínum með breskum þingmönnum bæði úr Íslandsnefndinni og utan hennar í vikunni sem leið, ræddum við m.a. Icesave deilur. Ekki varð ég var við annað en mikinn velvilja í garð Íslendinga og er það reyndar mín tilfinning að það sé smám saman að renna upp fyrir breskum stjórnmálamönnum hve mikla ósanngirni þeir sýndu Íslendingum í aðdraganda hrunsins og áttu með beitingu hryðjuverkalaganna sinn þátt í að atburðarásin varð sú sem við þekkjum. Þetta sögðu bresku þingmennirnir  í sumar og Fabian Hamilton þingmaður frá Leeds og mikill Íslandsvinur  lá ekki á þessum skoðunum sínum við íslenska fjölmiðla í sumar. Allt þetta var ítrekað ...

28. Október 2011

SAME OLD TORIES?


En sem dæmi um mikilvægi þess að fara að ábendingu Brendans Martins og gefa gaum að mögulegri stefnubreytingu stjórnmálaflokka þótti mér mjög merkilegt að heyra í samtölum við þingmenn í Westminster hve mikil vinna fer nú fram innan Verkamannaflokksins breska við að endurmeta efnahagsstefnu flokksins frá grunni. Um þetta fékk ég mjög gagnlega yfirferð í heimsókn minni í breska þingið í síðustu viku þar sem ég átti þess kost að ræða við fjölda þingmanna úr stjórnarliði og stjórnarandstöðu...

26. Október 2011

Á AFTUR AĐ SELJA OKKUR DRAUMALAND?

Gamall hafskipsmaður er nú í iðnaði. Hann er nýkominn úr ferð til Rússlands. Ekki til að kaupa bjórverksmiðju eða iðngarða. Hann fór með hópi manna til Rússlands undir gunnfána ráðherra, ef rétt er skilið. Hann leggur eftir þessa ferð til, að skattkerfið verði hérlendis eyðilagt með tilvísun til skattlagningar Pútíns og óligarkanna. Mér finnst formaðurinn óupplýstur, nota ekki sterkari orð. Veit hann ekki að Rússum hefur fækkað verulega undanfarin ár vegna þess að meðalaldurinn hefur lækkað? Veit hann ekki að ...
Ólína

26. Október 2011

AFMÖRKUĐ UPPLÝSINGAŢRÁ!

Ögmundur minn, það er því miður háttur óvandaðra RÚV-manna, að reyna að breiða yfir sín eigin svik, með því að benda á pólitíska andstæðinga eins og þig, sem eru hliðhollir lýðræði almennings í landinu. Þetta er vandræðalega afhjúpandi hjá þeim RÚV-urum. Þeir eru vanalega mest fyrir að rúlla bólu-boltum á skjánum, og svíkja með öllu lögboðna upplýsinga-skyldu RÚV, bæði fyrir og eftir hrun. Ég veit ekki á hverju ...
Anna

26. Október 2011

SÍUNGUR DENIS HEALEY


Það er nokkur aldursmunur á þeim Einari Árnasyni, ráðgjafa í innanríkisráðuneytinu, og Denis Healey, lávarði, fyrrum fjármálaráðherra Bretlands, og eins helsta stjórnmálaskörungs síðari hluta tuttugustu aldarinnar þar í landi. Annar fæddur 1917, og því níutíu og fjögurra ára, hinn fæddur 1956, og því 55 ára. Tæplega fjórir áratugir skilja þá að. En vináttu þeirra naut ég þegar Einar kynnti hinn virðulega öldung fyrir mér á heimili hans í Sussex í vikunni sem leið. Já, virðulegur vissulega, en ekki í þeim skilningi að hann taki sjálfan sig hátíðlega, því léttur er hann í lund og gerir óspart grín að sjálfum sér...

26. Október 2011

SMÁMÁL?


Vefmiðlinum Eyjunni er, eftir því sem ég best veit, ritstýrt af Karli Th. Birgissyni. Hann svarar í gær gagnrýni minni og ásökunum um alvarlegar rangtúlkanir og blekkingar á þann hátt að ég hafi „misst jafnvægið" út af „smámáli". Þetta kom mér eilítið á óvart því ég hafði talið að jafnvel Karl Th. Birgisson myndi ekki grípa til röksemda af þessu tagi - til þeirra þekkti hann of vel....Við sem viljum geta tekið fjölmiðla alvarlega lítum ekki á það sem „smámál" þegar sannleikurinn er afbakaður og fólk haft fyrir rangri sök. Einmitt það gerði Eyjan ...

25. Október 2011

MATREIĐSLA AĐ HĆTTI EYJUNNAR

Vefur Innanríkisráðuneytisins birti svör við spurningum Ríkisútvarpsins vegna ferðar minnar á ráðstefnu í Mexíkó. Fréttamiðillinn eyjan.is tók málið upp og matreiddi með sínum hætti. Allt skyldi með í uppskriftina. Í matreiðslunni urðu utanferðir mínar á rúmu ári að utanferðum mínum á tæpu ári. Ferða- og upphihladskostnaður tveggja manna varð í fyrirsögn að ferða- og uppihaldskostnaði eins manns - eins og ég hefði verið einn á ferð. Ferð sem tók rúma viku varð að fimm dögum þegar reikna átti kostnað fyrir hvern dag fyrir mig einan! Þannig varð fimm hundruð þúsund króna ferð að milljón króna-ferð!! Hvernig væri að...

25. Október 2011

RÍKISÚTVARPIĐ KOMIĐ Á RANNSÓKNARBUXUR?


...Ég geri ekki heldur athugasemd við að Ríkisútvarpið skuli hefja rannsóknarfréttamennsku sína á mér. Einhvers staðar þarf að byrja. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu. Hvernig væri að gefa nú skýrslu um ferðir starfsmanna Ríikisútvarpsins? Þannig mætti sýna einlægan vilja í verki. Hvernig væri að Óðinn fréttastjóri gerði grein fyrir sjálfum sér og sinna starfsmanna á undanförnu ári? Páll útvarpsstjóri mætti einnig gefa okkur skýrslu um sig og sína skrifstofu. Þetta er sagt í fullri alvöru. Síðan væri verðugt rannsóknarefni að kanna ferðkostnað vegna...

25. Október 2011

INNKAUP RÍKISLÖGREGLU-STJÓRA

Fæ ekki betur séð en að ríkislögreglustjóri brjóti lög nr. 94/2001 um opinber innkaup og ríkisendurskoðandi hafi rétt fyrir sér. Auðvitað þarf Innanríkisráðuneytið að skýra á hvaða lagagrein það byggi niðurstöðu sína á...
Pétur

20. Október 2011

DYLGJUR?

 Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir um embætti Ríkislögreglustjóra: "Að mati Ríkisendurskoðunar fór hluti þessara viðskipta í bága við lög um opinber innkaup." Þú getur verið ósammála þessu, en mér finnst sérkennilegt að sagt er á síðu ráðuneytisins: "Sú mynd sem dregin hefur verið upp í fjölmiðlum af embættinu er ómakleg og röng." Hverju hefur verið haldið fram öðru en því að embættið hafi brotið lög, skv. mati Ríkisendurskoðunar, og um hvað þau mál snúist? Hafirðu einhver önnur rök fyrir staðhæfingum þínum ættirðu að skýra frá þeim. Það hefðirðu átt að gera strax, því það er alvarlegt mál að ráðherra ....
Einar

19. Október 2011

SÉĐ HEF ÉG KÖTTINN SYNGJA Á BÓK

Einkennileg eru tíðindin um að spara þurfi burt spítalabedda fyrir dauðvona fólk og spara ráðrúm fyrir þá veiku, sem von eiga enn um heilsubót. ...Ástarsamband íslenskra stjórnvalda við valin stórverktakafyrirtæki er annálað. Eitt þeirra, Marti, er svissneskt að þjóðerni og hefur draugshund í bandi sínu, af íslensku hermangskyni, snatann IAV. Marti  er nú að ljúka við Hörpusmíði, sem hrökk 150% fram úr kostnaði, smíðatöfin tvö ár. Marti gerði gat á Óshlíð og var þar bætt 90% við verðáætlun.   Nú býðst Marti enn til verka við Vaðlaheiðargat og enn fagna örlát íslensk stjórnvöld. Startboð Martis er 8.9 ma kr. Miðað við Óshlíðarstílinn vex verðið í 16.7 ma kr. Miðað við Hörpustíl  í yfir 22 milljarða kr. Varla bregður ríkið af örlætishefð sinni ...
Baldur Andrésson   

18. Október 2011

ŢINGMÁL Í BEINNI...


Eflaust finnast meirra spennandi útsendingar á veraldarvefnum en af fundi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis sem fram fór í dag. Engu að síður voru umræðurnar áhugaverðar á köflum en Innaríkisráðuneytið sat fyrir svörum og kynnti þingmál komandi vetrar sem undir þessa þingnefnd heyra. Má nefna að umræður spunnust um frumvarp til barnalaga, framtíð dómstóla, skipan lögreglumála og áfengisauglýsingar. Kínverjinn Nubo kom við sögu, jafnræði lífsskoðunarfélaga og trúfélaga, spilakassar og sitthvað annað sem snertir mannréttindi, dómsmál og trúmál. Með beinum útsendingum sem þessum er Alþingi að...

17. Október 2011

TILLAGA UM SOGN

Ég legg til að athugað verði með að nýta Sogn, sem deild útfrá Litla Hrauni, og létta þar með á biðlistum á afplánun. Ljóst er að sinn tíma tekur að reisa fyrirhugað nýtt fangelsi og vel má nýta Sogn á meðan, starfsfólkið sem hefur unnið þar við réttageðdeildina gæti þá fengið vinnu við Sognarfangelsið.
Guðrún Sæmundsdóttir

16. Október 2011

HÖGGVIĐ Í SAMA KNÉRUNN

...Þeirri skoðun minni gæti ég nefnt mörg dæmi, en eitt það svaðalegasta er þó, að á sama tíma og á að fara í að byggja hátæknisjúkrahús við Hringbrautina fyrir amk. 50.000 milljónir, þá er enn og aftur höggvið í sama knérunn úti á landsbyggðinni og td. heilbrigðisstofnuninni á Húsavík gert að skera blóðugt inn að beini, því með því sparast 65 milljónir. Og á sama tíma á einnig að loka líknardeild aldraðra á Landakoti, því þannig sparast 50 milljónir. Þar með nær held ég illska þessa slátrunarfæribands út fyrir endimörk lífs og dauða. Ég ítreka, á sama tíma á að víbra niður galtóma steypu fyrir 50.000 milljónir við Hringbrautina. Hverjir forrita eiginlega þetta snarklikkaða slátrunarfæriband ríkisvaldsins? Getur það verið að Yfir-bankasýsla heimsins, AGS hafi komið þar að málum? Sé svo, hver er þá sláturhúss-stjórinn ...
Litla þúfa

16. Október 2011

HÖGGVIĐ Í SAMA KNÉRUNN

...Þeirri skoðun minni gæti ég nefnt mörg dæmi, en eitt það svaðalegasta er þó, að á sama tíma og á að fara í að byggja hátæknisjúkrahús við Hringbrautina fyrir amk. 50.000 milljónir, þá er enn og aftur höggvið í sama knérunn úti á landsbyggðinni og td. heilbrigðisstofnuninni á Húsavík gert að skera blóðugt inn að beini, því með því sparast 65 milljónir. Og á sama tíma á einnig að loka líknardeild aldraðra á Landakoti, því þannig sparast 50 milljónir. Þar með nær held ég illska þessa slátrunarfæribands út fyrir endimörk lífs og dauða. Ég ítreka, á sama tíma á að víbra niður galtóma steypu fyrir 50.000 milljónir við Hringbrautina. Hverjir forrita eiginlega þetta snarklikkaða slátrunarfæriband ríkisvaldsins? Getur það verið að Yfir-bankasýsla heimsins, AGS hafi komið þar að málum? Sé svo, hver er þá sláturhúss-stjórinn ...
Litla þúfa

15. Október 2011

SVONA MÁ SPARA!

Hér er ein hugmynd til að spara í heilbrigðiskerfinu - hafa sem minnst af sjúklingum. Til a hafa sem minnst af sjúklingum er að gera lækna ábyrga fyrir sínum sjúklingum og taka sína sjúklinga sem sjúklinga ekki sem viðskipamenn (fleiri viðskiptamenn meiri peningar í vasa). Þegar sjúklingur leitar til læknis þá ætti sjúklingurinn að fá bréf frá lækni með nokkrum setningum - afhverju sjúklingurinn kom, hvað er að eða niðurstaða, hvað er gert fyrir sjúklinginn. Síðan getur verið nefnd sem ráðleggur um ...
Stepanka

12. Október 2011

MANNRÉTTINDI Á ÍSLANDI RĆDD Í GENF

...Berlega kom í ljós að Barnahúsið íslenska hefur vakið heimsathygli fyrir hve ákjósanlegt fyrirkomulag það býður upp á til að tryggja börnum sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðilegu ofbeldi vinssamlegt umhverfi fyrir yfirheyrslur.Í ræðu minni sl. mánudag og í svörum við fyrirspurnum í kjölfarið tíundaði ég ágæti Barnahússins og sagði frá þeirri reynslu sem við höfðum haft af því. Ég ræddi fjölmörg önnur atriði og þá ekki síst áhrif banakahrunsins, vék að aðkomu Alþjóðagjladeyrissjóðsins og lagði áherlsu á að krepputímum væri ástæða til að vera á varðbergi gagnvart...

11. Október 2011

VALDAKERFI INNAN SKJALDBORGAR-MÚRA

Þetta bréf skrifa ég þér, þar sem Biskupstofa heyrir undir ráðuneyti þitt, eða er ekki svo? Ég geri ráð fyrir að þú sért í áfalli, sem flestir landsmenn, eftir að hafa orðið vitni að viðtali Þórhalls Gunnarssonar við Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur í sjónvarpinu á sunnudagskvöldið. Guðrún Ebba steig þar fram fyrir skjöldu og opinberaði okkur sögu sína um nöturleg samskipti við biskupinn föður sinn. Það kalla ég sanna hetjudáð hennar, sem óvarins einstaklings. Að fela sig bakvið og innan skjaldborga er hinsvegar iðulega háttur gunga og drusla. Þar er ég að tala um allt valdakerfi stjórnsýslunnar í heild. Hér hefur orðið siðrof á mörgum vígstöðvum, fyrir og eftir Hrun. Fyrir mér er saga Guðrúnar Ebbu ekki einungis bundin við kynferðislegt ofbeldi, nauðgun, heldur andlega og kerfislæga vald-nauðgun sem ráðamenn og konur stunduðu og stunda enn. Skýrsla ...
Jón Jón Jónsson

8. Október 2011

HVER ER ŢÍN AFSTAĐA?

Styður þú virkilega þetta Ögmundur??? http://www.ruv.is/frett/almannatryggingar-ekki-verdtryggdar ....
Hermundur Sigurðsson

8. Október 2011

SKIP SEM MYNDI HENTA

...Þetta skip myndi henta mjög vel sem nýr Herjólfur, hann er styttri 66mtr djúpristan er ekki nema 2.3mtr fulllestaður og ekki er verðmiðinn feitur, myndi kosta c.a 450 milj. hingað kominn með viðgerðum sem núverandi eigandi mælir með. Það verður eitthvað að fara að gerast í samgöngumálum Vestmanneyjinga....
Sveinn Ásgeirsson,
sjómaður í Vestmannaeyjum

8. Október 2011

KOMINN TÍMI Á ŢIG!

...Nú ert þú Ögmundur búinn að skipa starfshóp um Guðmundar og Geirfinns málið. Þú skipaðir Arndísi lögfræðing sem er fulltrúi hjá Ólafi Helga Kjartanssyni, sýslumanni á Selfossi. Nú held ég Ögmundur að þú ættir að fara að skipta um starsvettvang, ég er ekki einn með þessa skoðun.
Þórir Karl Jónasson

8. Október 2011

EKKI EFNI Á NAUĐSYNJUM

...Ef samfélagið okkar í dag er stjórnvöldum að skapi þá skil ég vel af hverju tugir ættingja minna og bæði systkyn mín hafa yfirgefið landið og neita að koma til baka. Vinnubrögð einhverra svokallaðra ,,auðmanna", sem enn ganga lausir, hafa gert það að verkum að draumur foreldra minna (að upplifa áratuga gamlan draum; að flytja til Spánar í hús sem þau borga af með glöðu geði) er orðinn að engu. Það ber ekki á öðru en að kröfu minni, um það sem fólk kallar ,,eðlilegt líf", verði ekki sinnt á meðan ég lifi. Þökk sé vinnubrögðum stjórnvalda verður seint sagt að Ísland sé land tækifæranna, eða hvað?
Elvar Örn Másson

7. Október 2011

SÁTT ŢARF AĐ RÍKJA UM RÉTTARKERFIĐ


Eitt umdeildasta sakamál í íslenskri réttarsögu er án efa svokallað Geirfinns- og Guðmundarmál. Í vikunni bárust mér 1.190 udirskriftir með hvatningu um að málið yrði tekið upp að nýju. Um leið var rekinn endahnútur á áralanga báráttu fyrir því að þessu umdeilda máli yrði hreyft því í dag var skýrt frá því að sérstakur starfshópur myndi nú hefja könnun á vinnubrögðum við rannsókn á málinu. Þetta er mikilvægt skref og markar ákveðin tímamót því um réttarkerfið þarf að rikja sátt...

6. Október 2011

HINN "EINKA-VINAVĆĐINGAR-VANI"

Nú byrja ég bratt og spyr þig beint: DATT BANKASÝSLAN AF HIMNI OFAN???? Þessi spurning mín kemur til af því, að sumir vilja meina að ríkisstjórnin beri enga ábyrgð á því, að stjórn Bankasýslu ríkisins hafi ráðið fyrrverandi handlangara og aðstoðarmann Valgerðar Sverrisdóttur við einkavinavæðinguna, hina fyrri (?) til að gegna nú forstjórastarfi Bankasýslunnar til að selja "eignarhlut ríkisjóðs í fjármálafyrirtækjum". Miðað við reynslu og fyrri verk Páls Magnússonar, þá læðist að mér sá óþægilegi grunur að nú eigi einkavinavæðing, hin síðari að fara fram. Nú sýnist mér vera þörf á því, að skera það út í pappa, hvað ábyrgðina varðar, að ...
Jón Jón Jónsson

5. Október 2011

Kári: ÍSLENSKA MAFÍAN TREYSTIR TÖKIN

Nýleg ráðning forstjóra Bankasýslu ríkisins sýnir vel að íslenska mafían er alls ekki á undanhaldi, þvert á móti hefur hún styrkt sig í sessi. Ýmsir bundu við það vonir að eftir íslenska efnahagshrunið yrðu teknir upp vandaðri og faglegri stjórnsýsluhættir, ekki hvað síst þegar kemur að opinberum ráðningum. Eins og flestum er kunnugt hafa opinberar ráðningar, áratugum saman, mjög gjarnan einkennst af sterkum pólitískum tengslum þess sem ráðinn er í ákveðið embætti við þá sem hafa veitingavaldið á hverjum tíma. Þetta hefur átt við um nánast allar stöður á vegum hins opinbera. Gildir einu hvort um hefur verið að ræða skrifstofustjóra í ráðuneytum, ráðuneytisstjóra, dómara Hæstaréttar, seðlabankastjóra og jafnvel skipan lektors í stjórnmálafræði svo nokkur dæmi séu tekin. Allt hefur þetta fólk verið í réttum flokkum og þóknanlegt veitingavaldinu. Meðal áberandi einkenna á þessu ...

3. Október 2011

ŢEIR SEM MÓTMĆLA...

Ég ætla að auðvelda þér að að taka upp Guðmundar og Geirfinnsmálin, með því að segja þér og öðrum, að alla vega Geirfinnur er á lífi. Það þarf að sanna að ég hafi rangt fyrir mér. Lík hafa aldrei fundist og þess vegna ert þú í fullum rétti til að lýsa eftir manninum í skjóli þessara upplýsinga. Þeir sem mótmæla þessum fullyrðingum verða að koma með rök og sannanir fyrir sínum fullyrðingum. Gangi okkur ...
Anna

3. Október 2011

VEIKLEIKI HRUNÁRANNA

Eitt má Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, eiga. Hann er alltaf líkur sjálfum sér og sennilega sá maður sem hann helst langar til að vera; óhagganlegur í gömlum tíma. Sem slíkur er Björn okkur alla daga lifandi áminning um hvað það var sem fór úrskeiðis þann tíma sem honum var treyst til að halda um stjórnvölinn í íslenskum stjórnmálum;  þann tíma sem í Íslandssögunni verður eflaust skilgreindur sem Aðdragandi hrunsins.  Fyrir þetta getum við verið Birni Bjarnasyni þakklát...Á þetta minnir Björn okkur svo ágætlega í síðustu viku þegar hann skrifar mikinn dómsdagspistil um meint óhæfuverk núverandi ríkisstjórnar.  Inn í skrif sín tekst honum á sinn hátt að hræra saman í eina blöndu ýmsu sem hann telur að gæti verið til þess fallið að skapa úlfúð og ala á tortryggni í garð ...

3. Október 2011

FINNAST MÁLEFNALEG RÖK GEGN NUBO?

Ég hef fylgst dálítið með umræðu um tilboð Huang Nubo og langar að spyrja þig nokkurra spurninga, Ögmundur: 1. Er rétt skilið hjá mér að aðeins sé um að ræða sölu á landi sem er í einkaeign? (og þar með ekki í eigu ríkisins eða þjóðarinnar) 2. Er rétt skilið að ef Nubo kaupir, eignist ríkið og almenningur vatnsréttindin sem nú eru eða kunna að vera í einkaeign? 3. Er rétt skilið hjá mér að mörg hundruð milljónir einstaklinga og annarra einkaaðila, þ.e. allir innan EES, gætu keypt þetta land án þess að fá leyfi ráðherra eða annarra opinberra aðila til þess, vegna þess að þetta er land í einkaeign? 4. Finnast yfir höfuð málefnaleg rök til þess að neita ...
Eggert Ólafsson,

3. Október 2011

HIS MASTERS VOICE


Styrmir Gunnarsson virðist óðum að jafna sig á samviskubiti sínu yfir þátttöku í hinu "ógeðslega þjóðfélagi", sem hann nefndi svo í rannsóknarskýrslu Alþingis, og skrifar grein á Evrópuvaktina sem minnir á gamla takta. Þar er látið að því liggja að ég hafi "flúið" af vettvangi þar sem mér hafi þótt óþægilegt að vera nálægt þegar skærist í odda milli lögreglu og ríkisvalds, enda byggi ég feril minn á starfi í launþegahreyfingunni. Ég er stoltur af starfi mínu í verkalýðshreyfingunni og afstaða mín til lögreglunnar hefur ekkert breyst.  
Það er auðvitað erfitt fyrir mann einsog Styrmi, sem byggir feril sinn á dyggri þjónustu við helstu valdaklíkur landsins að trúa öðru en því að allar gerðir manna hljóti að hafa ...

2. Október 2011

FORĐUM STÓRSLYSI!

...Ágæti Ögmundur.
Ég undiritaður vil biðja þig að reyna þitt besta sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands að forða því stórslysi sem áformað er varðandi niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Mikil óánægja ríkir meðal flokksmanna og stuðningsmanna flokksins, sem ég þekki til, um þessar fyrirætlanir. Við getum ekki varið þær gagnvart fólki og erum kallaðir svikarar. Eithvað sem ég persónulega get ekki sætt mig við. Við blasir og er þegar í gangi fylgishrun flokksins og hugsanleg endalok. Ég má til með að benda á að matarholurnar leynast víða. Til dæmis hjá kirkjunni. Í Kópavogi eru ...
Guðlaugur Gísli Bragason

30. September 2011

SAMGÖNGUŢING Í MEXÍKÓ


...Ánægjulegt var að sjá hve vel við komum út í alþjóðlegu samhengi hvað þetta varðar og hve mikilvægt það er að við birtum þessa jákvæðu mynd af íslenskri  verk- og tækniþekkingu á alþjóðavettvangi. Margt hef ég lært á því að sitja þessa ráðstefnu og hlýða á erindi og umræður. Þannig var áhugavert seminar um fjármögnun og eftirlit sem Hreinn Harladsson stýrði. Fulltrúi Alþjóðabankans flutti þar erindi ásamt fleirum og kom meðal annars fram i erindi hans að á árabilinu 2000 til 2010 hefði  56 milljörðum Bandaríkjadala verið varið í lánveitingar til vegaframkvæmda á vegum Alþjóðabankans. Síðan rakti þessi fulltrúi Alþjóðabankans hver hefðu orðið afdrif rúmlega fimm hundruð ...

27. September 2011

ENGAN ŢYKJUSTU-LEIK!

" Einkabíllinn á ekki eftir að verða ódýrari í rekstri á komandi árum". Þetta er alröng staðhæfing hjá þér hér á síðunni. Það kostar ca. 12 þús. kall að keyra venjulegan bensínbíl til Akureyrar. Sambærilegur kostnaður fyrir nýjan rafbíl er 3000 krónur. Ég held að það sé auðveldara að lækka eldsneytisverð og gera þrjúhundruðþúsund manns í 100 þúsund ferkílómetra landi kleift að eiga einkabíl, heldur en að vera í ...
HreinnK

27. September 2011

U-BEYGJA VG

Þegar þessi ríkisstjórn komst til valda, voru það skilaboð til okkar þe. þjóðarinnar að allt ætti að vera uppá borðum. Ég hef ekki séð það og flest það fólk sem ég er í sambandi við sér það ekki heldur ! Þú hlítur að sjá það Ögmundur að flokkurinn sem við tókum þátt í að stofna á sínum tíma hefur tekið stóra U beigu og er ekki sjálfum sér samkvæmur. Margt það fólk sem tók þátt í að stofna flokkinn er ekki lengur í honum þar á meðal undirritaður. Ég sagði mig úr flokknum fyrir mörgum mánuðum síðan því ...
Þórir Karl Jónasson

25. September 2011

HOUSTON EĐA AMSTERDAM EĐA ...


... Samkomulagið sem ríki og sveitarfélög á svæðinu standa að er tilraunaverkefni til tíu ára. Sveitarfélögin á svæðinu falla frá því að gera kröfu um stórframkvæmdir í vegamáum á vegum ríkisins - alla vega framan af þessu tímabili - en milljarði af hálfu ríkis og framlagi frá sveitarstjórnum að auki verði varið til þessa framtaks. Þar verður horft til almenningsvagna, hjólreiða og alls þess sem flokka má undir almenningssamgöngur.
Dýrt? Já, en kemur til með að spara peninga fyrir samfélagið og fyrir einstaklinga þegar fram líða stundir. Samgöngur eru nú annar stærsti útgjaldaliður heimilsbuddunnar, 16%, nokkuð á eftir húsnæðiskostnaði...

25. September 2011

ERTU SAMMÁLA SEĐLABANKA?

Deilir þú eftirvæntingu Seðlabankamanna eftir spákaupmönnum í vaxtamunarviðskipti? Síðast þegar núverandi stjórnendur Seðlabanka Íslands lögðust í víking, tókst þeim að koma hinum margrómuðu Jöklabréfaútgáfu í 1.000 milljarða og þar með urðu vextir ein helsta útflutgningsafurð Íslendinga. Í vikðurkenningarskyni, veitti núverandi aðalhagfræðingur bankans móttöku bikar frá Drobny Advisors sem sérhæfa sig í ráðgjöf til vogunarsjóða. Telur þú einhver hófleg efri mörk á heildarútgáfu jöklabréfa í framtíðinni? Er einhverstaðar hægt að kynna sér stefnu VG varðandi ...
Arnar Sigurðsson

24. September 2011

ENGA LANDASÖLU TIL KÍNVERJANS!

Ég tel að íslenska þjóðin hafi sýnt einstakan menningarþroska allt frá landnámi, þar til á miðri síðustu öld er við fyrst gengum í NATO og síðan í EES og Schengen, sem leiddu af sér einkavinavæðinguna og gjaldþrot íslensku þjóðarinnar!  En ég vil segja, að síðan þá, hefur íslensku þjóðfélagi og jafnvel skyn einstaklinga í of mörgum tilfellum í öllum stéttum, þá ekki síst þeir sem kalla sig stjórnmálamenn , hrörnað, visnað og ...
Helgi

24. September 2011

HVAĐ LÍĐUR UMSÓKN?

...Ég er nýr hér á heimasíðunni þinni. Er eitthvað að frétta af umsókn Huang Nubo? Hefurðu tjáð þig um það mál hér?
Eggert Ólafsson

24. September 2011

MENNING Á UNDANHALDI?

Ósköp er það raunalegt að komast að því hversu seint þessi þjóð virðist ætla að þroskast. Fjöldinn allur af málsmetandi fólki, þ.m.t. ráðherrar missti andlegt jafnvægi þegar kínverskur auðkýfingur gerði tilboð í eitt nafnkenndasta hálendisbýli Íslands. Nú höfum við fórnað gífurlegu landssvæði á hálendinu undir virkjunarlón og nú þegar hafa sannast illspár um sandfok og jarvegsmengun í Lagarfljóti ásamt því að náttúruperlan og bújörðin Húsey er að leggjast í auðn vegna sandfoks. Gerir fólk sér ekki ennþá ...
Árni Gunnarsson

24. September 2011

HIĐ RÖKRÉTTA

Í tilefni af atkvæðagreiðslu hjá SÞ. um sjálfstætt og fullvalda ríki Palestínumanna eður ei, þá langar mig til að endursegja brilljant komment um málið, sem ég fann einhvers staðar á flakki mínu um netheima. Í stuttu máli gengur kommentið út á spurninguna um hvaða rétt vestrænar þjóðir höfðu til að gefa síonistum í lok WWII, land Palestínumanna? Það voru ekki Palestínumenn sem myrtu Gyðinga á hryllilegan hátt í WWII, það voru þýskir Nasistar sem frömdu þau myrkraverk og því er það stóra spurningin hvers vegna þýskir Nasistar voru ekki látnir gefa Gyðingum land af sínu landi? Það hefði verið hið eina rökrétta í stað þess að ...
Jón Jón Jónsson

21. September 2011

LANDIĐ AFGIRT FYRIR PENINGA-MENN?

Varðandi Nubo og Grímsstaði á Fjöllum: Tel að gera eigi greinamun á landi og fasteignum (Róbert Spanó gerir ekki þennan greinamun í grein í Fréttablaðinu í gær). Víða erlendis er mikið af landi komið í einkaeigu. Það er þá afgirt og ekki aðgengilegt fyrir almenning og/eða ferðamenn. Tel mikilvægt að við á Íslandi varðveitum frjálst aðgengi að náttúrunni, þ.a. okkar afkomendur vakni ekki einn góðan veðurdag með mannheldar girðingar í allar áttir. Ef að hægt er að setja inn ...
Héðinn

21. September 2011

Jón Torfason skrifar: ENDURBĆTUR Á LAUGAVEGI

Það hefur verið skemmtilegt að rölta efir neðanverðum Laugaveginum þetta sumar og niður á Lækjartorg. Endurbyggða húsið við Laugaveg 6 er risið, nýlega búið að laga húsið við Þingholtsstræti 2, á horninu við Laugaveg af miklum myndarskap, og framlengja í fornum stíl bakhúsið við Lækjarbrekku, sem liggur upp að Skólastræti. Loks hefur Lækjargata 2 tekið á sig nýja og þó gamla mynd, Yfirréttarhúsið gamla í Austurstræti hefur verið endurgert með sem næst upphaflegum hætti en Nýja bíó loks risið úr öskustónni að baki þess. Fleiri merki sjást um viðgerðir gamalla húsa í Þingholtunum og víðar í gamla bænum. Þessi árangur hefur náðst fyrir mikið starf Torfusamtakanna, annarra húsverndunarsamtaka og áhugamanna en þorri borgarfulltrúanna hefur smám saman komist á þá skoðun að ...

21. September 2011

MEIRA LÝĐRĆĐI!

Þú hefur barist fyrir lýðræðislegri atkvæðagreiðslu og átt heiður skilið fyrir þá baráttu, og öflin sem vinna gegn slíku réttlæti vinna hörðum höndum að því að slá öll þín baráttuvopn úr þínum höndum! Án stuðnings þjóðarinnar, þingsins og ráðherranna er lífsins ómögulegt fyrir þig einan að breyta óréttlæti í réttlæti. Hvers vegna skyldi þingið og ráðherrarnir hafa sett sig upp á móti óbreyttu frumvarpi þínu um aukið lýðræði ...
Anna

21. September 2011

SAMRĆĐA BETRI EN SAMRĆĐULEYSI


Gott er til þess að vita að blóðið rennur enn í Íslendingum eins og fram kom á fundum mínum í Bjarkarlundi og á Patreksfirði í Vesturbyggð í gær. Ekkert hef ég við það að athuga að menn gangi af fundi til að leggja áherslu á að málin þurfi ekki frekari umræðu og að þeirra afstaða hafi ekki haggast og muni ekki haggast! Ef þetta er afstaða manna þá er ekkert við það að athuga að hún komi fram með afgerandi hætti.. Í þessari umræðu þarf að hafa í huga að heimurinn stendur ekki óhaggaður. Hafa þarf hliðsjón af breytingum sem eiga sér stað og eru að eiga sér stað. Ég hef sett málin upp með þessum hætti:...

19. September 2011

MJÚK LJÓĐLIST, HARĐIR PENINGAR

...Nokkur ár eru síðan Kalmarborg í Svíþjóð var fífluð af kínverskum peningabjálfum. Stjórnendur borgar keyptu þá hugmynd, að kínamenn gerðu Kalmar að evrópskri viðskiptamiðstöð sinni. Borgarskipulagi var breytt, ráðist í fjárfestingar,öðrum framfaramöguleikum ýtt til hliðar. Kalmar átti að öðlast forna frægð og styrk. Til Kalmar streymdu kínverskir launaþrælar verktaka og hróflað var upp illa byggðum viðskiptahúsum í hvelli. Þannig endaði draumsýnin sú. Kínamenn hurfu og eftir standa illa byggð og hálfbyggð mannvirkin, krákum að leik. Kalmarborg í stórtapi, og stjórnendur niðurlægðir. Kínagullið reyndist Kalmar dýrt glópagull. ,,Tugmilljarða króna stórvirki" eru nú sögð... 
Rósa

18. September 2011

GREIDDI ATKVĆĐI MEĐ EIGIN TILLÖGUM!


...Frumvarpið fékk góða og ítarlega umfjöllun í samgöngunefnd þingsins sl. vor og síðan í sumar og var gott samstarf á milli allra aðila sem að málinu komu. Allt gagnsætt og uppi á borði. Kvöldið fyrir þinglok var brugðið út af þessu verklagi  því þá, rétt fyrir lokaafgreiðslu málsins og án teljandi umræðu, kom fram  breytingartillaga frá samgöngunefnd Alþingis við eina veigamestu grein frumvarpsins, nefnilega ákvæði um íbúalýðræði. Með breytingartilllögunni var réttur íbúa stórlega skertur þvert á það sem ég sem flutningsmaður frumvarpsins hafði barist fyrir. ...Um þetta hefur verið talsvert fjallað í fjölmiðlum í dag, m.a. á visir.is. Umfjöllunin þar er um sumt góð en greinilega unnin á hlaupum því ...

18. September 2011

Baldur Andrésson skrifar: UM MARGS KONAR STRÍĐ

...Enginn skyldi vanmeta frjálshyggjuofstækið, þótt það velji sér  rólegt sýndar-yfirbragð. Hægriöflin eru enn albúin til árása, þótt ein byltingartilraun þeirra hafi orðið öllum dýrkeyptar ófarir. Hægt en bítandi reyna hægriöflin að finna á ný þau vopn sem duga málstaðnum. Þau ætla frjálshyggjunni fullan sigur, hverju sem tautar, hvað sem það kostar. Gegn þessu afli dugar ekki undanhald. Það býr mikið vit með Íslendingum almennt, gott siðferðiþrek. Brýnt er að þeir skilji þó til botns hið stóra pólitíska samhengi, standist sterkum áróðursöflum snúning, sameinist til góðra verka, láti ringlureið og hægralýðskrum ekki móta huga sinn. Allra síst eiga þeir að endurreisa svarinn óvin sinn af sárabeði. Sá óvinur vísar nú til ...

18. September 2011

TREGĐULÖGMÁLIN OG LÝĐRĆĐIĐ

klukkan
...Enginn á kröfu á samstöðu samráðherra sinna við eigin baráttumál ef aðrir ráðherrar hafa sannfæringu fyrir öðru. Við atkvæðagreiðslu á Alþingi eru þeir fyrst og fremst þingmenn. Þannig á þetta að vera, að hver og einn láti eigin sannfæringu sína ráða. ... Það hefur lengi verið mín sannfæring að í stjórnarmeirihluta eigi það viðhorf að vera ríkjandi, og þykja eðlilegt, að við atkvæðagreiðslu kunni  einstakir þinngmenn og ráðherrar að hafa skiptar skoðanir. Ríkisstjórn á ekki að standa og falla með samræmingu í öllum málum.  Ekki svo að skilja að almennt sé litið á afdrif lýðræðisins í nýrri sveitarstjórnarlöggjöf sem úrslitaatriði. Sjálfum þykir mér þetta þó vera stórt mál. Og sannast sagna kom það mér nokkuð á óvart hve eindregið Alþingi var á því að setja inn takmarkanir ...

17. September 2011

NĆST BOĐIĐ Í HERĐUBREIĐ?

...Nú treysta þeir á þig sem ekki eru enn blindaðir af erlendu valdi sem veður yfir heiminn og hefur það eina markmið að gleypa allt sem von er gróða af. Það gerist svo alltaf á kostnað umhverfisins, því lögmál er, að ekkert er hægt að taka af engu. Við eigum landið og megum undir engum kringumstæðum selja það, enda þurfum við þess ekki. Við sjálf getum nýtt það á skynsaman hátt, til góðs fyrir okkur og aðra sem þurfandi eru.
Fyrir nokkrum áratugum, þ.e. áður en...
Jóhann

15. September 2011

ER GRÍMSSTAĐA-FRÉTT RÉTT?

Ég sá því haldið fram á á Moggavefnum og víðar að þú vildir að umsókn kínverska auðkýfingsins um leyfi til að kaupa Grímsstaði á fjöllum færi í þjóðaratkvæðagreiðlu. Þetta finnst mér galin hugmyndi. Annars á ég erfitt með að trúa þessu. Er þétta rétt eftir haft?...
Forvitinn

14. September 2011

VALDIĐ TIL FÓLKSINS

Lydraediradstefna- sept. 2011
Ræða flutt á ráðstefnu um lýðræðismál 14.09.11
...Nú á sér stað hliðstæð barátta milli þingræðissinna og lýðræðissinna, sem vonandi lýkur með sigri lýðræðissinna. Verkefnið nú er að tryggja framgang lýðræðisins og búa því traustan og framsækinn lagalegan ramma. En minnumst þess að ekkert kerfi er eilíft. Til að lýðræðið lifi þarf stöðugt að næra það og gæða það lífi. Vandinn mun síðan í framtíðinni sem hingað til, felast í því að...

13. September 2011

VELKOMIN Á LÝĐRĆĐISRÁĐSTEFNU


Miðvikudaginn 14. september, býður Innanríkisráðuneytið til ráðstefnu um lýðræði í samvinnu við Reykjavíkurborg og samtökin Initiative and Referendum Institute Europe. Ráðstefnan verður haldin í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst klukkan 10:15. Ráðstefnan er öllum opin... Borgarstjórinn í Reykjavík og forseti Íslands flytja ávarp í byrjun eftir að kvennakór Jóhönnu Þórhallsdóttur syngur nokkur lög tengd málefninu. Mínar hugleiðingar á þessari ráðstefnu tengjast gamalkunnu stefi sem John Lennon söng um á sínum tíma, Power to the People, Valdið til fólksins. Mjög áhugavert verður að heyra Svisslendinginn Bruno Kaufmann...

12. September 2011

UM BLINDAN HJALLAHÁLS

 tilefni af fréttatilkynningu frá þér nýlega um veginn vestur sendi ég þér hlekk á grein sem ég birti á vef BB. Greinin er skrifuð í flýti eftir að ég heyrði fréttina en samt held ég á viðtökunum að hún lýsi hug margra. Ég hef átt marga erfiða ferð um Hjallaháls á liðnum árum enda er hann og verður blindur í norðaustanáttinni sem er ríkjandi þarna á veturna, auk þess sem hálka er þarna mjög oft. Láglendisvegur er nauðsynlegur þarna. Slóðin er ...
Pétur Bjarnason

12. September 2011

Kári skrifar: ŢRENNS KONAR BANKARÁN

...Viðbrögð víða að úr "kerfinu" við síðustu tegund bankarána valda vissum áhyggjum. Lítið fer fyrir ákærum á hendur helstu stjórnendum og ábyrgðaraðilum bankanna enda þótt flestir hinna meintu afbrotamanna séu þekktir og enginn þeirra hafi verið með lambhúshettu þegar þeir frömdu brot sín. Enginn vafi er á því að hefðu þeir sem frömdu bankarán af "fyrstu gerð" ["utan frá" og með haglabyssu] fundist hefði þess ekki verið langt að bíða að dómar féllu í málum þeirra. En þegar banki er rændur samkvæmt "þriðju gerð bankarána" [sem er auðvitað mun þróaðri aðferð] þar sem velflestir gerendur eru þekktir, þá standa málin mjög í "kerfinu" sem gjarnan ber við háu flækjustigi málanna. Flækjustigið er vissulega hátt en skýrir þó ekki ...

8. September 2011

ENGA UNDANŢÁGU v/ GRÍMSSTAĐA!

Það var léttir að hlusta á viðtal við þig í Kastljósi þar sem þú lýstir afstöðu þinni til sölunnar á Grímsstöðum og hvernig þú hugðist taka á því máli. Að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar þar sem langtímasjónarmið eru höfð að leiðarljósi er mikilvægara en nokkuð annað fyrir framtíðarheill Íslands. Þakka þér Ögmundur fyrir yfirveguð og vönduð vinnubrögð nú sem endranær.
Valgerður Haukdóttir

6. September 2011

ÓLÖF GUĐNÝ OG PÝRAMÍDINN Á SPRENGISANDI

OGV pýramídi
Aldrei mun ég gleyma því þegar fulltrúar Seðlabanka Íslands komu á fund þáverandi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að svara spurningum um efnahagsáhrifin af Kárahnjúkavirkjun og þá sérstaklega hvað varðar framkvæmdirnar. Viðkvæðið var nefnilega að þær þyldu enga bið vegna stundarslaka í hagkerfinu...Ég leyfði mér þá að spyrja hvort áhrifin væru sambærileg ef um það væri að ræða að byggja pýramída á Sprengisandi. Væru hagvaxtaráhrifin, sem þeir mærðu svo mjög sambærileg? Svarið var játandi...En umræðan ætlar að reynast síglid. Í nýlegum pistli á Smugunni segir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir - mjög svo réttilega  - að þegar stórákvarðanir sem snerta náttúruna séu annars vegar, beri að ...

5. September 2011

"ŢAĐ VAR ŢÁ SEM LITLA ŢÚFA HUGSAĐI MEĐ SÉR..."

...En af viðhlæjendum athafnaskáldsins sýnist mér reyndar, að hann treysti fremur á innvígða lögfræðinga (og jafnvel þingmenn og ráðherra) í og úr Pandóru-boxi Samfylkingarinnar.  Þannig birtist nýlega frétt, í beinni frá Kína, þar sem lögfræðingarnir Sigurvin Ólafsson og Lúðvík Bergvinsson, fyrrv. þingmaður og áður talinn "pótensjal" ráðherraefni Samfylkingarinnar í Hrun-stjórninni,  sátu undarlega glaðbeittir á svip, meðan Kristín Árnadóttir sendiherra Íslands í Kína fékk í hnén og nánast starði sem dáleidd á athafnaskáldið og auðkýfinginn Huang Nubo.  Það var þá sem Litla þúfa hugsaði með sér, að hér væri ekki allt ...
Litla þúfa

5. September 2011

HAFNA BER LANDSÖLU!

Ég vona að íslenskum yfirvöldum beri gæfa til að hafna kaupum Huang Nubos á Grímstöðum á Fjöllum. Fyrir því liggja margvísleg rök, t.d. þau að það felst mikil áhætta í því að selja fulltrúa stórveldis svo stóran hluta af Íslandi. Kínverskir einstaklingar kunna að vera hið besta fólk en kínverska ríkið metur hins vegar einstaklinga ekki mikils og fótum treður mannréttindi. Með fullri virðingu fyrir Kína þá verður það að segjast að ...
Pétur

4. September 2011

SKYLDI MANNINUM EKKI LEIĐAST...

Passusálmur nr. 53

Á Grímsstöðum á Fjöllum
gengur maður í lopapeysu
og lítur til fjalla.
Og fjárfestar koma
á einkaþotum
til að horfa á hann.

Það er heiðskýrt og kuldi.
Og himinn bjartur og blár.

Þetta er gulur maður
með glatt enni
og gljásvart hár.

Og stúlka sem er einhverskonar þerna
segir mér:
Skyldi manninum ekki leiðast
að hafa Ögmund á móti sér?

Kristján Sig. Kristjánsson

4. September 2011

HÁLFKARAĐ STEINSTEYPUBÁKN Á HÁLENDINU?

... Sá sem þetta skrifar er ekki einn af þeim sem í grundvallaratriðum eru á móti því að útlendingar fjárfesti á Íslandi heldur tel ég að það eigi að skoða hvert dæmi fyrir sig og meta það. Það á til dæmis við um áform kínverska auðmannsins á Grímsstöðum á Fjöllum. Það sem ég óttast mest í þessu sambandi er að farið verði á stað með stórframkvæmdir sem síðan koðna niður í miðju kafi. Versta hugsanlega niðurstaða úr öllu saman væri að við sætum uppi með hálfkarað steinsteypubákn á hálendinu, öllum til ama og ...
Guðmundur J. Guðmundsson

4. September 2011

ER FALIN MYNDAVÉL???

Varðandi Grímsstaði á Fjöllum: Hér virðist annars vegar um að ræða 1400 000 000 manna einræðisríki sem ásælist 300km2 landsvæði hjá fámennri lýðræðisþjóð. Einræðisríkið hefur stundað gríðarlegt landnám í afríku og fylgt fótfestu eftir með ágengri diplómatíu/lobbyisma svo líkt hefur verið við engisprettufaraldur. Hvernig skyldi okkur sjálfum svo hafa gengið að ná fram réttlæti gagnvart fjármálamönnum, t.d. handhöfum fiskveiðiheimilda, eða útrásarvíkingum? Höfðu þeir síðarnefndu ekki stjórnvöld meira eða minna í vasanum fram að hruni og hafa þeir fyrrnefndu ekki verið ósnertanlegir, bæði fyrr og síðar? Eigum við síðan að fá eitt stykki kínverskt heimsveldi í ábót? Getur nokkur lifandi maður séð fyrir sér ...
emil jón ragnarsson

2. September 2011

STENDUR VÖRĐ UM HAG ŢJÓĐARINNAR

Þakka þér Ögmundur enn og aftur fyrir að standa vörð um hag þjóðarinnar þegar aðrir stjórmálamenn láta glepjast af erlendu gulli, óháð því hvernig það er fengið... Vona að þú standir sem fastast á því að koma í veg fyrir sölu á Grímsstöðum til erlendra aðila. Það má vera að Nobu gangi ekkert illt til með kaupum þessum, en verði þau leyfð þá er viðbúið að fjöldi annarra auðkýfinga fylgi í kjölfarið. Gangi kaupin eftir þá eru ...
Elín Laxdal

2. September 2011

SAMA HVER SITUR Á RÁĐHERRASTÓL!

Því miður vil ég ekki koma fram undir nafni en síðueigandi getur hæglega séð hver ég er. Málið er að ég sótti um réttaraðstoð til Innanríkisráðuneytisins til að fara fyrir héraðsdóm og lýsa mig gjaldþrota. Ráðuneytið hafnaði erindi mínu þar sem galþrotabeiðni væri ekki dómsathöfn. Þetta er beinlínis rangt. Ráðuneytið veitir réttaraðstöð við nauðasamningsumleitanir sem er rekin eftir sömu lögum á sama hátt. Þetta er líka í margítrekað álit Umboðsmanns Alþingis sem hefur oft hnippt í sama ráðuneyti um rétt borgaranna til ...
Nafnlaus

2. September 2011

AĐ SÓPA UNDIR TEPPI

... Já stundum er bara sópað undir teppið að fela rykið en afsakanir fyrrum saksóknara Efnahagsbrotadeildar RLS eru æði þunnar en sem slíkur ber hann ábyrgð á allri deildinni en Ríkislögreglustjóri hefur yfirstjórnina á höndum. Þetta mál er þess eðlis að gera á stjórnsýslu úttekt á embættinu og Efnahagsbrotadeild um hvar þröskuldurinn hafi í raun og veru verið. Réttilega eru færustu menn hjá Séstökum Saksóknara en það kemur ...
Þór Gunnlaugsson

2. September 2011

VÖRSLUSVIPTINGAR OG RÉTTARRÍKIĐ


...Hitt er þó öllu alvarlegra og það eru aðdróttanir formanns Lögmannafélags Íslands um að hækkanir á dómsmálagjöldum réttlæti að fara framhjá lögum í innheimtuaðgerðum. Þessi lógík er handrukkurum og ofbeldismönnum eflaust að skapi, en ekki okkur hinum sem viljum heldur að ágreiningsmál séu leyst með aðstoð réttarvörslukerfsins. Með rökfræði Brynjars mætti hins vegar afnema réttarríkið í heild sinni, enda fylgir því umtalsverður kostnaður sem við berum öll saman, óháð því hvort við þurfum nokkurn tímann að leita til dómstóla. Brynjar velur - og er það væntanlega með ráðum gert - að skauta alfarið framhjá þeirri staðreynd að vörslusviptingarmenn hafa ekki heimild til að beita valdi, sama hversu hagkvæmt þeim kann að þykja það gagnvart ...

1. September 2011

JARĐAKAUP

...Það er ekki hægt að réttlæta það að selja landið undan börnum okkar og barnabörnum. Komandi kynslóðir eiga sama rétt og við, eiga land heilt og óskipt.
Þór

1. September 2011

ÖFUGMĆLI STJÓRNMÁLANNA

Karl th. Birgisson
...Karl Th. Birgisson, segist vera svo skyni skroppinn að hann skilji alls ekki málflutning minn og spyr hvort mér finnist útlenskir kapítalistar verri en íslenskir. Vissulega er það rétt að ekki hefur það alltaf reynst vera svo. Þess vegna hef ég lagt áherslu á það í mínu starfi á vettvangi stjórnmálanna að styrkja almannarétt en ekki einkaeignarrétt þegar auðlindir eru annars vegar... Hins vegar dáist ég að Íslendingnum Karli Th. Birgissyni, sem sér engan mun á Íslendingum og Kínverjum. Tvær frjálsbornar og jafnstæðar þjóðir sem geti vel komið fram hvor við aðra, sem jafningjar. Frjálshyggjuhugsjónir Karls Th. Birgissonar eru á heimsmælikvarða, þótt þær séu ...

29. Ágúst 2011

KÍNVERJAKAUPIN ERU HĆTTULEG

Eru ekki lög um þetta?: 1966 nr. 19 6. apríl 1. gr. [Enginn má öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum á landi hér, þar á meðal veiðirétt, vatnsréttindi eða önnur fasteignaréttindi, hvort sem er fyrir frjálsa afhendingu eða nauðungarráðstöfun, hjúskap, erfðir eða afsal, nema þeim skilyrðum sé fullnægt sem nú skal greina...
Dóra Thoroddsen

29. Ágúst 2011

ARFLEIFĐ AGS LÍMIST EKKI INN Í STJÓRNMÁLASÁLINA!


...Á vegum AGS var aldrei spurt um það svo ég heyrði til, hvaða áhrif hagfræðimódel sjóðsins hefði á líf fólks í landinu; hvernig ástandið væri á spítölum eða hvort öryrkjar næðu endum saman eftir skerðingu á lögbundnum kjörum þeirra.  Það stóð hins vegar ekki á AGS þegar rætt var um hugmyndir um almenna niðurfærslu lána, fyrningu vegna gjaldþrota, hallann á ríkissjóði og fjármálaskuldbindingar út í lönd. Þá var sjóðurinn mættur með allar sínar ráðleggingar og dómsdagsspár. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vildi líka láta innræta okkur vinnubrögð við fjárlagagerð sem byggðu á tilskipunum að ofan og minnist ég sérstakrar kennslustundar, sem efnt var til með ríkisstjórninni til að kenna tilskipunarfræðin. Af þessum sökum fagna ég brotthvarfi AGS og vona að ...

29. Ágúst 2011

HORFUM LÍKA Á TĆKIFĆRIN!

Þú segir að það þurfi að skoða kaup Kínverjans Nobu á 70% hlut í Grímsstöðum á Fjöllum út frá öllum hliðum og ekki gleypa áætlanir hans hráar. Það er auðvitað fullkomlega eðilegt. En af skrifum þínum að dæma virðist þú strax hafa tekið afstöðu gegn honum áður en nokkur umræða hefur farið fram. Það les ég allavega milli línanna. Ég held að þú ættir sjálfur að skoða málið frá ólíkum hliðum og íhuga hvort ...
Gunnar

28. Ágúst 2011

TÍMI TIL AĐ HUGSA... AF YFIRVEGUN!


...þá er það svo að löggjafinn á Íslandi sá ástæðu til að setja skorður við að færa eignarhald á íslensku landi til útlanda. Við þurfum að spyrja hvort sá fyrirvari sé úreltur. Mér finnst ekki svo vera. Nú stöndum við frammi fyrir því að kínverskur auðmaður vill kaupa 3 hundruð ferkílómetra af Íslandi. Þetta þarf að ræða, en ekki kyngja ómeltu. Væri okkur sama þótt landið allt yrði selt? Hvað þýðir það fyrir utan það sem augljóst er og gerðist í auðmannabólunni, að verð á jörðum fór upp í þær hæðir að aðeins peningafólk gat keypt? Það leiðir okkur að atriði númer tvö; nefnilega að eignarhald á landi skiptir máli. Á það erum við minnt  nú þegar talað er um að friðlýsa Gjástykki. Þá segir talsmaður Reykjahlíðar ehf ...

25. Ágúst 2011

HEGGUR SÁ ER HLÍFA SKYLDI


...En mikið er ógert. Allar stofnanir, allar starfsstéttir og eintaklingar þurfa að horfa inn á við því öll myndum við þagnarmúrinn með einum eða öðrum hætti; múr sem okkur ber siðferðileg skylda til að rjúfa.
Mér þótti áhrifarík frásögn drengs af hrottalegu heimilsofbeldi sem fyrir fáeinum dögum birtist víða á vefnum og þar með talið á vefsíðunni bleikt.is. Þar lýsir drengurinn því hvernig skjólið sem heimili á að vera breyttist í vígvöll. En ekki nóg um það, heldur fann hann ekki skjól í skólanum. Það voru ekki einungis nemendur sem veittust að niðurbrotnum drengnum heldur líka sá sem ...

25. Ágúst 2011

Baldur Andrésson skrifar: VAĐLAHEIĐAR-VÉLIN

...Þetta heiðargatsmálefni er talandi sönnun um að með samstilltum vélbrögðum og skrumi má keyra fram stór málefni og valda um leið samfélagsusla. Nauðsyn jarðganga um Vaðlaheiði er umdeild. Varla verður gatinu stillt upp sem þarfasta samtaki á Íslandi.  Á hinn bóginn er fullyrt að göngin verði samfélaginu í heild enginn kostnaðrabaggi. Reksturinn byggist á ,,vali einstaklingsins" þ.e. vilja hvers vegfarenda til aukaútgjalda, sér til þæginda og hagræðis. Á þessu skrumi hefur vélbragðið byggst. Að líkum munu senn birtast ,,leiðréttingar" við sjálfbærniútreikninga talsmanna Vaðlaheiðargats og um leið ...

24. Ágúst 2011

HVERS VEGNA EIGA SKATT-GREIĐENDUR AĐ AĐSTOĐA LÁNADROTTNA?

...Enn á ný berast fréttir um að stjórnvöld ætli að bjarga einkaaðilum, innlendum sem erlendum, sem lánað hafa gáleysislega til Hafnarfjarðar. Nú virðist eiga að búa til "fjármálagerning" með ríkisábyrgð sem gagnist lífeyrissjóðum svo þeir hinir sömu geti "kokkað sínar bækur" miðað við 3,5% raunávöxtunarkröfu. Því ítreka ég fyrri spurningar, hvaða rök...
Arnar Sigurðsson

23. Ágúst 2011

SAMSTAĐA UM FANGELSI


....Nýlega skrifaði ég blaðagrein til varnar alútboði. Í alútboði eru allir verkþættir boðnir út í einum pakka, hönnun, teikning , smíði, allur pakkinn eins og það heitir. Þetta getur haft sína kosti, verið leið til að ná kostnaði niður og miðstýra verkinu í samræmdan verkfarveg á frumstigi.  Arkitektafélagi  Íslands  var hins vegar ekki skemmt. Arkitektar sögðust vilja samkeppni um teikningar og hönnun sérstaklega. Alútboð væri hamlandi fyrir litlar og meðalstórar stofur. Í alútboði væru þær iðulega settar undir hælinn á stórverktökum. Og þar sem arkitektar væru sú stétt sem verst hefði orðið úti í hruninu, mætti spyrja hvers þeir ættu eiginlega að gjalda. Ég sannfærðist og breytti afstöðu minni. Hafði reyndar verið að ... Nýja fangelsið á Hólmsheiði á að taka til starfa innan þriggja ára. Um það var góð samstaða í ríkisstjórn.

21. Ágúst 2011

Kári skrifar: ÍSLENSKIR FJÁRGLĆFRA-MENN Í DULAR-GERVI ERLENDRA FJÁRFESTA?

...Hún er virkilega áleitin sú spurning hvort þetta sé það sem átt er við með "erlendri fjárfestingu"; innkoma og afturganga íslenkra fjárglæframanna í íslenskt atvinnu- og fjármálalíf. Magma-leikritið á Suðurnesjum sýnir vel að hægur vandi er að fara í kringum reglur og lög á evrópska efnahagssvæðinu þegar um "erlenda fjárfestingu" er að ræða. En þar var sænskt skúffufyrirtæki notað sem milliliður fyrir "kanadíska fjárfesta". Fróðlegt væri að vita hvort t.a.m. Halldór J Kristjánsson, Finnur Ingólfsson eða aðrir sem tengsl hafa við íslenskt bankakerfi hafi þar komið að málum. En margir muna vel eftir þætti "erlenda fjárfestisins" Hannesar Smárasonar í REI-málinu svo kallaða. Öll hafa þessi mál verið með mjög sérstökum blæ svo ekki sé nú meira sagt. Það er ekki óeðlilegt að staldrað sé við þegar umræðan um "erlendu fjárfestinguna" sprettur upp aftur ...

21. Ágúst 2011

EKKI ESB!

...Ertu að hafa einn gamaldags vinstri sinnaðan og grænan nóboddía að fífli Ögmundur minn? Eða er ég kannski bara svona grænn og saklaus og hrekklaus, að ég skilji bara ekki leyndó-pólitík þína? Ertu á hraðferð eftir átóbana og beint fram af bjargbrúninni með Össuri inn í ESB, undir fölsku flaggi skjaldborgar um heimilin ... eða ekki? Hver er þín raunverulega "Masters Voice" Ögmundur minn ... eða ekki?
Nóboddinn

19. Ágúst 2011

UM FRELSI OG GĆĐI ÁKVARĐANA

Birtist í Fréttablaðinu 18.08.11.
Fréttabladid haus...Þetta hefur leitt það af sér í hugum gæðahyggjumanna á félagshyggjuvæng stjórnmálanna að áherslan hefur verið á jöfnun tækifæranna og þar með jafnræði í stað jöfnuðar eins og sósíalistar og sósíaldemokratar fyrri tíðar lögðu margir áherslu á. Sömu sögu er síðan að segja um viðfangsefni lýðræðisins, og þá einkum hvað hinn almenni kjósandi megi taka ákvörðun um milliliðalaust og hvenær eigi að fela sérvöldum hópi að taka ákvarðanir fyrir hans hönd. Líkleg útkoma eigi hér að ráða för. Þannig heyrast oft varnaðarorð gegn því að heimila almenna beina kosningu um skatta- og fjármálatengd atriði svo og milliríkjasamninga. Þar kemur fram ótti um að niðurstaðan verði ekki góð eða rétt. Frjálshyggjumenn eru margir hallir undir það sama, það er að segja platónska elítustjórn. Þannig er sýn gæðahyggjumanna og frjálshyggjumanna á einstaklinginn iðulega áþekk. Hlutverk...

19. Ágúst 2011

EKKI EINKA-FRAMKVĆMD!

...Ég vil leyfa mér að skora á þig að kvika ekki frá fyrri afstöðu þinni varðandi nýtt fangelsi á Hólmsheiði og sitja hjá eða mótmæla á næsta fundi þegar ákvörðunin verður tekin og hreint borð verði hjá þér. Að hlusta á Velferðarráðherrann tala léttilega um ástandið á LSH og það frábæra starf forstjórans og starfsfólks þar við nánast ómögulega stöðu án þess að hann fyrirskipi aflögn allra aðgerða annarra en bráða aðgerða. Ábyrgð forstjórans er mikil og enn meiri hjá fjárveitingavaldinu og eru þingmenn i fjárlaganefnd ekki ...
Þór Gunnlaugsson

17. Ágúst 2011

FRÉTTAUMFJÖLLUN TIL UMHUGSUNAR

...Fangelsismálin eru ofarlega á baugi og lái ég ekki fjölmiðlum að búast við fréttum af  þeim eftir hvern ríkisstjórnarfund sem haldinn er enda ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir að málið verði frágengið í þessum mánuði. Þarna eru fjölmiðlar að sinna eðlilegum skyldum sínum. Ekki reyndist málið komið á það stig í gær að það yrði afgreitt. Hlaup mín af ríkisstjórnarfundi voru vegna þess að fundurinn hafði dregist á langinn og ég orðinn of seinn annað! Hélt ég sannast sagna að fréttamenn þekktu mig af öðru en að forðast að standa fyrir mínu máli. Þetta verður mér hins vegar umhugsunarefni um fréttaumfjöllun í landinu. Þannig reifar Ríkissjónvarpið í gærkvöldi...

12. Ágúst 2011

Kári skrifar: FRELSARI ÁRSINS 2004

...En hvers vegna er verið að rifja upp fortíð "Frelsara ársins 2004"? Hafa ekki hann og aðrir álíka lagt áherslu á það að horfa til framtíðar - gleyma fortíðinni? Nú vill svo til, að þessi "sparisjóðahirðir" er ævinlega fullur heilagrar vandlætingar þegar rætt er um atvinnulaust fólk á Íslandi og atvinnuleysisbætur sem svo eru nefndar. Þá sér hann djöfulinn í öllum hornum og á ekki orð yfir ósvífni fólks sem þiggi atvinnuleyisbætur og jafnvel án þess að þurfa þess. Nýlegar fréttir í fjölmiðlum staðfesta það. Mætti halda að Pétur sjái þetta sem eitt mesta böl þjóðarinnar, fyrr og síðar. "Maður líttu þér nær" var einhvern tíma sagt. Þetta tal verður í meira lagi ótrúverðugt í ljósi viðskipta- og stjórnmálaferils Péturs. Oft mætti ætla að...

8. Ágúst 2011

RÉTTAR TEKJUR?

Ég sá um daginn tekjublað Frjálsrar Verslunar og sé þig þar tróna í tæpri milljón á mánuði. Áður hafði ég séð sömu tölur í DV. Þetta er í hróplegri mótsögn við það sem þú gefur upp sem tekjur þínar á heimasíðu þinni og hjá VG. Þarft þú ekki að vera sjálfum þér samkvæmur? Ef þetta er rangt, hví leiðréttir þú þetta ekki? Svar óskast...
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Ágúst 2011

ŢÖRF Á AĐ FORGANGSRAĐA

Vildi bara lýsa ánægju minni með síðasta pistil. Ég er því miður ekki viss um að dúóið sem stýrir ríkisstjórnarskútunni sé reiðubúið að takast á við ákvarðanir um nýja forgangsröðun í ríkisrekstrinum.
Andrés Jónsson

7. Ágúst 2011

AĐ ŢEKKJA AFLEIĐINGAR GJÖRĐA SINNA


...Þannig er þessu að sjálfsögðu einnig farið annars staðar í kerfinu. Undir mitt ráðuneyti  - þar sem ég ber ábyrgð - heyrir dómskerfið og löggæslan, samgöngukerfið og margvísleg önnur starfsemi. Sumt er þetta nátengt ríkinu, annað síður, til dæmis Þjóðkirkjan. Hún er engu að síður látin lúta niðurskurði ekki síður en...Reyndar hefur lenskan hér á landi í allt of ríkum mæli verið sú að loka augunum og vilja ekkert vita. Þannig hafa ríkisstjórn og Alþingi skorið niður og síðan er augunum lokað. Óábyrgast er þegar gengið er á hlut framtíðarinnar. Þannig gerist það enn að stjórnmálamenn stíga fram til að slá sjálfa sig til riddara, krefjast risafjárfestinga sem þeir ætla síðan öðrum að...

6. Ágúst 2011

SVARS ÓSKAĐ VIĐ SAMVISKU-SPURNINGU

Jæja, nú er komið að stóru samviskuspurningunni minni til þín og mér þætti mjög vænt um ef þú svaraðir spurningunni af fullkomnum heiðarleika ... bara beint frá almennum sanngirnis- og réttlætis-gildum þínum; og þess vegna beint frá hjarta þínu: Styður þú réttmæta og góða baráttu Hagsmunasamtaka heimilanna, sem vel að merkja má að nokkru leyti líkja við baráttu ykkar í Sigtúns-hópnum hér um árið ? Afstaða þín í þessu máli gæti skipt sköpum, ef þú kemur fram af festu og myndugleik í þessu máli, gegn ...
Pétur Örn Björnsson

5. Ágúst 2011

EKKI NEIN LÚXUSFANGELSI!

...Fangelsið á Litla-Hrauni er öryggisfangelsi en það vantar pláss fyrir almenna afplánun dóma þeirra sem ekki teljast stórhættulegir og vegna smærri brota og því passar Víðines ágætlega rétt eins og Kvíabryggja og Bitra en menn vilja bara glæsihöll með nýjustu tækni fyrir 1.5 milljarð. Kanski verður það í líkingu við það Norska sem sýnd var frá í fréttum nýlega fyrir hættulegustu fangana luxus vistarverur flatskjáir í hverjum klefa internet líkamsrækt og fleira allt til betrunar og á lóðinni eru smáhýsi til samvista fjölskyldum þeirra. Samverusalir fanga og fangavarða sem eru hvattir til samvista við fanga og hafa engan varnarbúnað á sér?? Þeir sem eru hættulegastir þjóðfélaginu eru vistaðir á Réttargeðdeildinni og geta valsað um þar á lóðinni og skroppið á Selfoss í klippingu en eru ekki fangar og því engin gæsla?? Hvaða hugsun er ...
Þór Gunnlaugsson

5. Ágúst 2011

VÍĐINES GÓĐUR KOSTUR?

...Ég sé einmitt Víðines fyrir mér sem gæsluvarðhaldsfangelsi, einfaldlega vegna þess, hve stutt það er frá borginni. Ég veit að þú hefur sett þig vel inn í þessi mál, en oftast eru afbrotamenn sem eiga yfir sér gæsluvarðhald fluttir að Litla Hrauni. Kostanaður við að sækja þá til yfirheyrslu í Reykjavík, er alveg óheyrilegur, en um þetta gætir þú vafalaust fengið upplýsingar, bæði hvað varðar ...
Hafsteinn Sigurðsson

5. Ágúst 2011

HEIMSPEKI ŢRASTAR ÓLAFSSONAR

Birtist í Fréttablaðinu 04.08.11.
Fréttabladid haus...Mér finnst farið að þverra mjög andlegt þrek manna þegar allar hugsanir og allar setningar enda á ESB. Samúðin er í ESB. Mannúðin er í ESB. Samhjálpin er í ESB. Menningarleg vitund okkar er í ESB. Umræðan felst nú í að leysa úr einnar breytu jöfnunni x+ESB=Gott, þar sem x merkir: Allt sem er til í heiminum. Allt sem ESB gerir er gott. Hótanir ESB í garð íslenskra sjómanna vegna makrílveiða eru auðvitað bara umhverfisvernd. Krafan um Icesavegreiðslu er tilraun til uppeldis á óstýrilátu barni. Aðstoð við innheimtu óhóflegra bankalána gráðugra evrópskra banka er "hjálp" til Grikkja. Krafan um að ...Ætli það hafi svo mikið að gera með tilvistarhyggju Sartres, einstaklingshyggju Mills eða sósíalisma Marx? ESB er ekki nafn á heimspekikenningu. ESB er ....

3. Ágúst 2011

SEINHEPPINI Á FRÉTTABLAĐI


...Niðurstaðan hefur jafnan orðið sú eftir skoðun á  málinu að þetta sé óhagkvæmt og muni reynast dýrara þegar upp er staðið, a) vegna nauðsynlegra og umfangsmikilla breytinga á húsnæðinu, b) vegna rekstrarkostnaðar sem er það sem máli skiptir til framtíðar horft. Ný fangelsisbygging, sem þegar er að grunni til úthugsu (grunnhugmyndin er komin á blað og bíður útfærslu arkitekta), er hugsuð með þetta í huga, ákjósanlegar aðstæður fyrir starfsmenn og fanga og sem minnstan rekstrarkostnað. Síðan er náttúrlega einn veikleiki í frétt Fréttablaðsins...

1. Ágúst 2011

HVERS VEGNA SAGĐI ENGINN NEITT?


Hinir mætu útvarpsmenn Ævar Kjartansson og Jón Ormur Halldórsson ræddu við Jón Baldvin Hannibalsson...Í þættinum var spurt hvers vegna hafi verið  lítið viðnám hér á landi við einkavæðingarfárinu og nýfrjálshyggjunni sem reið röftum  á árunum undir hrun. Svo er að skilja að Jón Baldvin hafi meðal annars svarað því til að Samfylkinguna hafi skort sýn jafnaðarmanna á stjórnmálin eins og gömlu kratarnir hefðu búið yfir. Annars hefði Samfylkingin aldrei lagt fylgilag við hugmyndir af þessu tagi. Þetta held ég að sé rétt svo langt sem það nær. En því miður held ég að þessi skýring nái ekki mjög langt ...

30. Júlí 2011

HVAĐ GAFST ŢÚ?


...En aftur að Hugo, sem alla tíð hefur verið í uppáaldi hjá mér eða síðan ég heyrði hann einhvern tímann fjalla um vinnusálfræði og samskipti á vinnustað. Sjónarhorn hans var skarpt og frumlegt. Þessir eiginleikar komu fram í fyrrnefndu viðtali í Fréttatímanum. Sérstaklega fannst mér snjallt það sem hann hafði að segja um gjafir. Hugo vill ekki spyrja börn hvað þau hafi fengið í jólagjöf - einsog okkur flestum er tamt að spyrja - heldur snýr hann dæminu við...

30. Júlí 2011

LÝĐRĆĐISRÍKIĐ ÍSLAND VERĐUR AĐ STANDAST SAMANBURĐ

...Ég hef raunar komist að þeirri niðurstöðu að það hljóti að vera erfitt fyrir heiðarlegan mann að stýra þessu ráðuneyti, og komast á snoðir um viðbjóðinn í lokuðu og læstu skúffunum... Þú ert, held ég, í svipaðri stöðu varðandi Lögregluna og forverar þínir voru gagnvært þrálátum sögum um barnaníðinga í Kirkjunni, og þöggun yfirmanna... Þeir hljóta að hafa spurt sig: getur þetta verið satt - svona mikið ógeð hjá jafn "heiðarlegri" stofnum og Kirkjunni (Lögreglunni). - En við vitum svarið Ögmundur: Já ógeðið er staðreynd. Þú getur ekki hummað þetta af þér...þú getur heldur ekki ...
Símon Falkner

29. Júlí 2011

NEYTENDAVERND EĐA RÉTTTRÚNAĐUR?


...Er leikurinn til þess gerður að fullnægja kröfum um samkeppni að forminu til eða er hugmyndin að skapa fyrirkomulag sem raunverulega þjónar neytendum og lækkar verð til þeirra. Gamla lagið þar sem framleiðandinn merkti vöruna  - hverja einustu pakkningu - gaf smásöluversluninni kost á að veita afslátt frá uppsettu verið - m.ö.o. samkeppni til lækkunar frá verði framleiðandans. Allar upplýsingar aðgengilegar án fyrirhafnar. Samkeppnin núna er hins vegar blindandi og þykir mér hún fremur bera vott um rétttrúnað á form en raunverulega neytendavernd. Er ég kannski að ...

29. Júlí 2011

LAGFĆRINGA ŢÖRF

Svona er unnið gegn þvi að öryrkjar geti menntað sig, og þeim gert ókleift að sporna við veikindum sínum með þvi að reyna að afla sér auka aðstoðar, bætur í dag eru ekki upp á marga fiska og svona hegðun gegn öryrkum er ekki til að bæta það, áhugavert dæmi um hvað öryrkjum er gert erftt fyrir þegar kemur að þvi að sjá fyrir sér, 2010 fékk ég styrk frá svæðisskrifstofu málefna fatlaðra til þess að greiða skólagjöld í ...
Steinar Immanúel Sörensson

29. Júlí 2011

ENGA ŢRJÓSKU!

Þetta snýst ekki um hvort að ríkisvaldið megi brottvísa Mouhamde eður ei. Hér er maður sem þekkir fátt annað en ánauð og hefur gert sitt besta til þess að öðlast frelsi. Hví ekki veita honum möguleika á því hér? Það er ekkert sem að hamlar íslenskum stjórnvöldum að veita honum hæli. Dyflingarreglugerðinn blessaða gefur ...
Rannveig

29. Júlí 2011

KEPPT VERĐUR Í GĆĐUM OG HAGKVĆMNI VIĐ BYGGINGU FANGELSIS

Birtist í Fréttablaðinu 27.07.11
Fréttabladid hausFramkvæmdastjóri Arkitektafélags Íslands, Hrólfur Karl Cela arkitekt, lýsir áhuga félagsins á undirbúningi byggingar fangelsis á Hólmsheiði í opnu bréfi til forsætisráðherra, fjármálaráðherra og innanríkisráðherra í Fréttablaðinu 22. júlí. Fyrir það vil ég þakka og um leið útskýra hvernig að málinu er staðið. Bygging nýs fangelsis hefur verið á verkefnalista stjórnvalda í langan tíma. Of langan. Mjög brýnt er að hrinda því verkefni í framkvæmd. Um það erum við sammála. Umgjörð og búnaður fangelsis þarf að standast kröfur um ítrasta öryggi, góðan aðbúnað fanga og starfsmanna og hagkvæmni í byggingu og rekstri. Arkitektinn bendir á að umhverfi fanga skuli vera mannsæmandi enda er það þáttur í því að fangavist leiði til betrunar. Um það erum við einnig sammála...

28. Júlí 2011

NOTA MÁ ELDRA HÚSNĆĐI!

...Auðvitað þarf gott fangelsi fyrir okkar ógæfumenn, en okkur vex það í augum hversu dýrt það yrði að byggja nýtt fangelsi. Mér er nú ofarlega í huga Arnarholt á Kjalarnesi, sem bæði stutt frá Borginni og væri hægt að gera það rammbyggt fyrir hluta af því sem færi í nýtt fangelsi. Eins er með Víðines sem er ekki frekar í notkun en hitt, en væri kjörið fyrir gæsluvarðhald, enda stutt frá. Svo má nefna Vifilsstaði o.fl. staði sem eru flestir í eigu hins opinbera. Þetta var ...
Hafsteinn B. Sigurðsson,
fyrrv. lögreglumaður

28. Júlí 2011

HÚSNĆĐI ER FYRIR HENDI!

...Sendi þér þessa ábendingu um að aflagðir heimavistarskólar gætu vel hentað til fangavistar. Í heimavistarskólum geta herbergi verið fangaklefar. Þar eru nægilega mörg salerni, baðaðstaða fyrir marga, eldhús, mötuneyti og oftast íþróttahús og jafnvel sundlaug. Ennfremur eru þar oft starfsmannahús og íbúðir. Ég hef skoðað nokkra eldri ...
Viggó Jörgensson

28. Júlí 2011

SVARS ÓSKAĐ

Herra "safi". Af hverju koma alltaf svörin við bréfum til þín frá safi@bsrb ? Með von um gegnsætt svar frá herra "safa". Og hver ert þú annars herra "safi" ? Þar sem prókúruhafi þessarar síðu er væntanlega Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, þá langar mig til að fá hann til að virkja sínar forvirku rannsóknarheimildir til að kanna þennan vafasama "safa", sem svarar bréfum í stíl Hrannars fyrir Jóhönnu, þannig að allar ár renna til Dýrafjarðar. Þar sem margt er hulið ...
Noboddíinn

28. Júlí 2011

Kári skrifar: UM RÁĐHERRA-ÁBYRGĐ

...Samkvæmt kenningu Þorsteins á aldrei að ákæra samkvæmt ákvæðum neinna laga ef minnsti möguleiki er á því að hægt sé að tengja slíka ákæru við pólitík af einhverju tagi. En er ekki Alþingi pólitísk stofnun? Setur það ekki ábyggilega lögin sem þegnum landsins er ætlað að fara eftir (þar með taldir stjórnmálamenn)? Svo virðist sem Þorsteinn sé þeirrar skoðunar að ráðherrar skuli undanþegnir lögum, þ.e. að lög skuli ekki ná til þeirra. Þá vaknar sú spurning í hvaða tilvikum skuli beita lögum um ráðherraábyrgð og enn fremur hvort beiting laganna verði ekki ævinlega tengd pólitískum störfum ráðherra. Hvers konar tilvik sér Þorsteinn fyrir sér þar sem lögunum væri beitt en ekki reyndi á pólitísk störf viðkomandi ráðherra? Eða er Þorsteinn almennt þeirrar skoðunar að ráðherrar skuli standa algerlega utan við lög og rétt? Ber þá að ...

27. Júlí 2011

BÓKHALDSLEIKFIMI

Ég hef fylgst af áhuga með skiptum skoðunum ykkar flokksformannsins á fjármögnun nýs fangelsis. Eftir því sem ég fæ best séð snýst ágreiningurinn ekki um hvort ríki eða einkaaðilar skuli reka fangelsi, heldur aðeins hvort ríkið greiðir fyrir það með eigin lántökum eða gerir langan leigusamning við byggingaraðila, væntanlega með ríkisábyrgð. Eini munurinn á þessu er að með einkaframkvæmd kemur fjárfestingin ekki fram í bókum ríkisins sem slík, þess í stað er kostnaðurinn falinn í bókhaldinu. Aðferðin er alþekkt og hefur stundum leitt fjárhagslegar hörmungar yfir þá sem ...
Þorsteinn Siglaugsson

26. Júlí 2011

ERU FJÁRMÁLAMENN KOMNIR Í STJÓRNSÝSLUNA?

Ég hlustaði á morgunútvarpið í Ríkisútvarpinu fyrir helgi þar sem fjármálaráðherrann var spurður út í afstöðu sína til ágreinings innan ríkisstjórnarinnar um að ríkið byggi fangelsi (hugmynd Ögmundar) eða að einkaaðilar byggi það (hugmynd Jóhönnu). Mér fannst gaman að hlusta á Steingrím og jánkaði hverju orði eins og ég var vön að gera þegar Jón Baldvin talaði hér á árum áður. Það var þó eitthvað í viðtalinu sem sat í mér og eftir að hafa hlustað aftur á það á netinu eftir helgina ...
Sigurbjörg

26. Júlí 2011

MÁLEFNI HĆLISLEITENDA: EYĐUM MISSKILNINGI OG MISTÖKUM

Birtist í DV 25.07.11.
DV...Annað er að málefnið er þess eðlis að þögn um það er varasöm. Iðulega eiga í hlut einstaklingar sem búa við erfiðustu aðstæður sem hægt er að hugsa sér og geta varðað líf og dauða. Umræðuna vil ég því taka alvarlega. Með opinni umræðu er einnig hægt að eyða misskilningi, leiðrétta ósannindi og þá hugsanlega einnig mistök sem kunna að eiga sér stað hjá öllum hlutaðeigandi. Þar er ég sjálfur að sjálfsögðu ekki undanskilinn.

24. Júlí 2011

STJÓRNLAGARÁĐ Á MÓTI LÝĐRĆĐI?

Þakka þér greinina um Stjórnlagaráðið og lýðræðið. En hvernig stendur á því að ekki aðrir en þú skuli taka þetta upp? Stjórnlagaráðsfólkið virðist ætla að setja í stjórnarskrá bann við því að kosið verði um tiltekin málefni í þjóðaratkvæðagreiðslu!!!  Ef við viljum kjósa um alþjóðaskuldbindingar eða fjárhagsleg málefni þá á að vera bann við því í stjórnarskrá lýðveldisins!!! Ef þetta verður inni þá ...
Jóel A.

24. Júlí 2011

VARSTU TEKINN Í KARPHÚSIĐ?

Einhverjum  innanbúðarmanni í þingflokki VG þótti greinilega ástæða til að koma því á framfæri við kratamiðilinn Eyjuna að Árni Þór Sigurðsson hefði tekið þig "í karphúsið" í tölvupóstssamskiptum ykkar þingmanna VG. Heimildarmaður Eyjunnar segir þetta óvenjulegt því Árni Þór sé ...
Jóhannes Gr. Jónsson

24. Júlí 2011

ŢAĐ SEM HELST HANN VARAST VANN...

...Ekki veit ég hve margir hafa lesið ritsmíðar Þorsteins Pálssonar. En sökum nýtni hans nægir að lesa eina, tvær greinar til að fá góða mynd af skoðunum höfundar því alltaf er sama stefið, nánast sama greinin, aðeins mismunandi orðuð... Tilefni skrifa Þorsteins að þessu sinni er einkaframkvæmd, nokkuð sem ég hef lagt mig sérstaklega eftir að rannsaka í hálfan annan áratug... Hef ég í þessu sambandi varað við því að nálgast viðfangsefnið á grundvelli pólitískrar hugmyndafræði en þess í stað ætti að styðjast við reynsluvísindin; skoða staðreyndir gaumgæfilega og meta þær með hliðsjón af reynslunni... Annars ætti  Þorsteinn Pálsson að  íhuga hvort ...

23. Júlí 2011

FRAMTÍĐ REYKJAVÍKURFLUGVALLAR

MBL -- HAUSINNBirtist í Mogunblaðinu 22.07.11.
Málefni Reykjavíkurflugvallar hafa verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu í tengslum við fyrirhugað samkomulag ríkis og Reykjavíkurborgar um að bæta aðstöðu fyrir innanlandsflugið. Hvað sem langtímaáformum líður þá verður ekki undan því vikist lengur að bæta aðstöðu fyrir farþega og starfsfólk. Um þetta er sem betur fer að skapast samstaða. Í framhaldinu hefur síðan kviknað að nýju umræðan um framtíð flugvallarins til langs tíma. Í því sambandi hef ég talað fyrir því að málið verði útkljáð í almennri atkvæðagreiðslu sem taki til landsins alls...

22. Júlí 2011

STJÓRNLAGARÁĐ OG LÝĐRĆĐIĐ: GRÍN EĐA ALVARA?


...Á liðnum mánuðum höfum við annað veifið séð í skrifum, ættuðum úr forræðishyggjupennum, að þjóðinni sé „ekki treystandi" þegar skattar og fjármál eru annars vegar. Nú bætast þarna ofan á „þjóðréttarlegar skuldbindingar." Þegar EES samningurinn var til umræðu á sínum tíma töldu margir að í samningnum fælist stjórnarkrárbrot; viss ákvæði hans væru skerðing á löggjafarvaldi Alþingis og íslensku dómsvaldi. Ef Stjórnlagaráð fær sínu framgengt verður þetta ekki vandamál í framtíðinni þar sem stjórnarskráin myndi beinlínis banna þjóðinni að kjósa um málefni sem snúa að þjóðréttarskuldbindingum. Er íslenska þjóðin þá ekki að banna sjálfri sér að segja sig úr EES? Hún væri altént að banna sjálfri sér að hafa afskipti af fullveldisafsali innan ESB ef ...

21. Júlí 2011

HĆLISLEITENDUR

Ég vil með skeyti þessu skora á þig sem hæstráðanda í málaflokki pólitískra flóttamanna, að taka af fullri alvöru yfirlýsingum Mouhamde Lo frá Máritaniu um yfirvofandi örlög hans snúi hann aftur til landsins. Vil minna á að talið er að um 18% íbúa þessa ríkis séu þrælar og Máritanía sker sig úr öðrum ríkjum heims hvað varðar svartnætti það sem þrælahald er. Bendi á þessa vefsíðu samtaka sem ...
Valdimar Hrafnkelsson

20. Júlí 2011

VESTFJARĐAHEIMSÓKN: FRÓĐLEG OG UPPLÝSANDI


...Enn naut ég náttúrufegurðar og gistrisni en nú var komið nýtt til sögunnar: Áhugi á samgöngumálum, ástandi vega, flugvalla; augun á hverri holu og nibbu upp úr vegi...Víða sáust merki um skemmtilega sprotastarfsemi. Nefni ég þar sem dæmi hótel Ráðagerði á Patreksfirði...Þá var gaman að koma í Sjóræningjahúsið á Patreksfirði ...Þar var áður vélsmiðja en er nú smám saman að umbreytast í tónleikamiðstöð og matsölustað sem tekur á móti hópum. Þar snæddi ég ásamt ferðafélögum gómsæta og afar vel matreidda bleikju í skemmtilega hráu umhverfi gömlu vélsmiðjunnar. Við ornuðum okkur við eldinn af vörubrettum sem gaman var að sjá verða að ösku á gríðarmikilu eldstæði. Mér sýndist brettin vera merkt Evrópusambandinu. Nóg brenni, góður matur og ...

19. Júlí 2011

"ŢVÍ MIĐUR...."

Já það er bara ætlast til þess að þú leysir allar misfellur í opiunberum rekstri innan og utan þíns svið örugglega vegna þess að fólk veit að þú ert ekki tvöfaldur í roðinu eins og margir þingmenn eru því miður. Nýjasta dæmið er svokallað Mannsmorð eins og Bubbi orðar það réttilega Guðmundar og Geirfinnsmálið sem ætlast er til að þú endurvekjir þrátt fyrir andspyrnu Hæstaréttar og Ríkissaksóknara. Ég man nokkuð vel eftir þessu máli sem gamall rannsakari og ég er ekkert hissa þótt ekki megi vekja upp drauginn fyrr en allir rannsakendur eru komnir undir græna torfu en samt væri hægt að spóla á leiðinu eins og dæmin sanna með fyrrum biskup. Þarna voru menn algerlega að tapa sér unnið dag og nótt og ljótar sögur heyrðust úr Síðumúlafangelsinu um meðferð fanga. En hvað var hér í gangi? Jú það kom til ...
Þór Gunnlaugsson

18. Júlí 2011

KJARNINN ŢARF AĐ VERA TIL STAĐAR


...Var vel við hæfi að þeir fyrstu sem fóru yfir brúna til að opna hana formlega voru brúarsmiðirnir, hjálparsveitarmenn og fulltrúar löggæslu sem sameiginlega stóðu þessa vakt.Hvað varðar hina erlendu heri og þekkingu þeirra þá er ég sannfærður um að þeir myndu leita í smiðju Íslendinga þyrftu þeir að glíma við jökulfljót. Ætli doktor í Markarfljóti, eins og vegmálastjórinn okkar hefði ekki meiri þekkingu á þessum málum en þeir sem ekkert til þessara náttúruafla þekkja? Ég fletti að gamni mínu upp...

14. Júlí 2011

GÖT Í FJÁRLÖGUM

...Já, fyrrverandi Samgönguráðherra fer mikinn í aftursætinu og hendir rusli út um hliðargluggana en þeir sem þekkja hann vita betur og taka ekkert mark á þessu rausi. Staða ríkissjóðs er alvarleg og svo virðist að meirihluti Fjárlaganefndar beri þar höfuðábyrgð og sérstaklega formaður hennar. Ef ársreikningar fyrirtækja væru með öðrum eins götum og fjárlögin yrði örugglega hvellur. Afgreiðsla Fjárlaga án þess að gera ráð fyrir nokkurri launahækkun opinberra starfsmanna eru klækindi til að gefa ekki tóninn um ásættanlega launahækkun þeim til handa en skekkja um leið fjárlögin. Þá er væntanlega meðgjöf með Spkef verði af henni lögleysa í augum ...
Þór Gunnlaugsson

14. Júlí 2011

INNANLANDSFLUGVÖLLUR Í REYKJAVÍK

Birtist í Fréttablaðinu 13.07.11.
Fréttabladid haus...Þau áform sem nú eru uppi byggjast á því að báðir aðilar taka tillit til sjónarmiða hins. Þannig segjast talsmenn borgarinar enn stefna á flutning flugvallarins í framtíðinni en ég sem ráðherra samgöngumála hef marglýst því yfir að ég vilji hafa flugvöllinn þar sem hann nú er og að ég muni beita mér fyrir því að svo verði. Enda þótt Reykjavíkurborg hafi skipulagsvald innnan borgarmarkanna verður ekki fram hjá því horft að landið undir flugvellinum er að mestu leyti í eign ríkisins. Allt eru þetta staðreyndir máls ... Um framtíðina í þessu efni er hins vegar ekki samkomulag. Þess vegna er niðurstaðan nú vonandi sú að reist verði ný flugstöð Skerjarfjarðarmegin flugvallar sem yrði hönnuð með þeim hætti að hún gæti átt eftir að víkja. Þetta er leiðin út úr öngstræti kyrrstöðunnar...

14. Júlí 2011

Í RÍKIS-VILLU Í TREKYLLISVÍK?

Nú hef ég séð að það standi jafnvel til að flytja þig hreppaflutningum til Trékyllisvíkur. Mér hefur skilist að Þráinn fasistabani í Villi Gemsa flokki Steingríms haldi fast við þá kröfu, enda hefur hann líf þessarar vesælu og maðkétnu ríkisstjórnar í hendi sér. Ég hélt að það værir þú, en þú ert svo aumingjagott ríkis-atvinnu-góðmenni að líkast til læturðu þetta eftir honum og sjálfum mastermind Beríanna, Birni Val, samherta Brimaranum. En verður ekki örugglega byggð þar yfir þig vönduð ríkis-villa? Ég veit að ég þarf ekki að benda sönnum nómenklatúru komma eins og þér á, að auðvitað skaltu notast við útboðsgögn frá ...
Nóboddíinn

13. Júlí 2011

Í UMBOĐI HVERS?

Birtist í Fréttablaðinu 12.07.11
Fréttabladid haus...Hér vísar ritstjórinn í þá afstöðu mína, sem ég hef verið beðinn um að gera grein fyrir, meðal annars í þessu blaði, að ég vilji reisa nýtt fangelsi á Hólmsheiði og standa þannig að því að kostnaður verði sem minnstur til framtíðar. Ekki er um það deilt að einkaframkvæmd, sem felur í sér að einkaaðili reisi sérhæft húsnæði og leigi síðan opinberum aðilum, er miklu dýrari en að bjóða út hönnun og smíði fangelsis sem yrði frá fyrsta degi í eigu hins opinbera...

12. Júlí 2011

ŢREFALDUR Í VÍKINGALOTTÓINU

...Heimilislæknirinn minn sagði mér á dögunum að allar heilsugæslustöðvar á Reykjavíkursvæðinu, sem opnaðar hefðu verið í seinni tíð, væru svona gullgerðarvélar; langur leigusamningur, há leiga, sem ekki kemur að fullu fram vegna þess að málin eru bara skoðuð frá einum fjárlögum til annarra.
Nú ætti Fréttblaðið að fara í að diska upp upplýsingar um hve ríkið greiðir mikið í leigu á þessum kjörum, hverjum er greitt, hverjir eiga félögin sem fá greitt og hvaða fjármálaráðherra lét gera samninga. Eða með öðrum orðum: Hvaða embættismenn bera ábyrgð á því að skattfé almennings er sturtað niður með þessum hætti? ...
Ólína

11. Júlí 2011

VEGAGERĐIN: VEL SMURĐ VÉL


...Í dag sendi innanríkisráðuneytið frá sér fréttatilkynningu þar sem meðal annars er svarað ómaklegri gagnrýni á hendur Vegagerðinni. Sú gagnrýni er hins vegar undantekningin frá reglunni því í mín eyru ljúka flestir - og allir sem til þekkja - upp lofsorði á framgöngu Vegagerðarinnar. Ýmsir vildu sjá gröfur að verki frá fyrstu mínúntu. Miklu meira er hins vegar um vert að framkvæmdaaðilar leggi skipulega niður fyrir sér hvernig vinna eigi verkið og síðan sé framkvæmt. Þá rís brú sem heldur. Öfug röð er ekki vænleg til árangurs...

9. Júlí 2011

NÝTUM FJARFUNDABÚNAĐ!

...Hart er gengið á eftir innanríkisráðherra um byggingu nýs fangelsins á Hólmsheiði sem eigi að kosta 1 milljarð en endar líklega í 2-2.5 milljörðum fyrir 45 fanga. Það er von að það standi eilítið í mönnum þar sem fjarfundarbúnaður er fyrirbæri sem dómstólar þekkja ekki. Það er bara engin nauðsyn að flytja fangana í bæinn þar sem hægt er að koma upp eða tengja saman núverandi búnað Héraðsdóms um ljósleiðara í fundarherbergi fyrir austan og sakborningur hafi þar skjá þar sem hann sér og heyrir alltsem fram fer í dómssal og getur ...
Þór Gunnlaugsson

8. Júlí 2011

BJÓĐUM FÓLK VELKOMIĐ TIL REYKJAVÍKUR!

Ég er mjög ánægður með að Reykjavíkurflugvöllur verður áfram þar sem hann er nú.Við eigum alls ekki að torvelda fólki að koma til höfuðborgarinnar.Við eigum að bjóða fólk velkomið.
Jóhannes T. Sigursveinsson

8. Júlí 2011

REYKJAVÍKURFLUG-VÖLLUR Á AĐ VERA Í VATNSMÝRINNI!

Staðfesti hér með ánægju mína með ummæli ráðherra um stöðu flugvallarins í Vatnsmýrinni. Málþófið sem engan enda virðist ætla að taka og hvað viðhorfið gagnvart helsta samgöngutæki höfuðborgarinnar hefur einkennst af annarlegum sjónarmiðum. Það er borðliggjandi að í Vatnsmýrinni er honum best borgið og þar á hann að vera um aldur og ævi. Það er áhyggjuefni að fólk með einkennilega afstöðu til vallarins hafi verið ...
Sveinbjörn Matthíasson

6. Júlí 2011

VEGTOLLAR OG KÚLULÁN Í BOĐI SAMTAKA IĐNAĐARINS

Birtist í Morgunblaðinu 05.07.11
MBL -- HAUSINN...Grein sína í Morgunblaðinu nefndi Helgi Magnússon Hugsum stórt - ekki eins og Ögmundur. Það er nefnilega það. Ætli þetta hafi ekki verið hluti af okkar vanda, menn sem sögðust vilja hugsa stórt, en þegar á hólminn kom reyndist stórhugurinn á sandi reistur og það sem verra er, alltaf á kostnað annarra...

5. Júlí 2011

EKKI GEFA EFTIR Í VEGTOLLAMÁLUM!

Ég er þér sammála Ögmundur um að gefa ekkert í þessum vegatollsmálum vegna nýlagningar þjóðvega í þéttbýli og gera um leið fólki sem býr á Suðurlandi ókleyft að stunda vinnu sína sunnan heiða vegna kostnaðar. 10% hækkun er boðuð 1. júlí í Hvalfjarðargöngum vegna minni umferðar og þess að bæta hafi þurft brunavarnir til að uppfylla ESB staðla sem kosti sitt. Þá eru einnig uppi áform um gjaldtöku í væntanlegum Vaðlaheiðargöngum en hvers vegna? Af hverju skal vera frítt í Siglufjarðargöng og Vestfjarðargöng? Mér finnst fyllilega réttmætt að sporna við fótum og banna hreinlega alla gjaldtöku í göngum þannig að allir standi jafnfætis burtséð frá búsetu og ættu menn að muna Reykjanesbrautina og tollhliðin þar. Staðan í ríkisfjármálum er grafalvarleg og ...
Þór Gunnlaugsson

4. Júlí 2011

ŢUNGU HÖGGIN REYNDUST VINDHÖGG


...Nú bregður svo við að Kristján L. Möller vill lítið við þessa forsögu kannast og mætti halda að hann væri að koma ferskur og án sögu og ábyrgðar að þessum málum. Þannig  talar hann um aðgerðarleysi mitt þegar hann sjálfur átti í hlut og tekur undir ábyrgðarlaust tal manna á borð við Jón Gunnarsson alþingismann, sem sagði á Bylgjunni í þættinum Reykjavík síðdegis fimmtudaginn  30. júní 2011 meðal annars eftirfarandi: ,,Og ég segi sko á meðan við erum ekki búin að ákveða hvernig við ætlum að haga þessari gjaldtöku í framtíðinni, sem þarf að endurskoða, þá skulum við taka þessi lán og hefja framkvæmdir. Svo getum við gefið okkur þessi ár sem við höfum þá til þess að ákveða skattlagningarstefnu sem svo verður að endurskoða á þessum tíma"...

3. Júlí 2011

ICESAVE: ŢETTA VAR RANGT!


Fabian Hamilton, þingmaður breska Verkamannaflokksins talaði tæpitungulaust í sjónvarpsfréttum á föstudag. Hann kvað bresku stjórnina hafa gengið fram af óbilgirni gagnvart Íslendingum í Icesave deilunni. Nefndi hann hryðjuverkalögin sérstaklega og einnig það grundvallaratriði að þröngva íslenskum almenningi að axla byrðar einakbanka vegna ákvarðana sem bankarnir hefðu tekið á sínum eigin forsendum. Íslenska þjóðin hefur nú talað skýrt í þessu máli og ég var henni sammála, sagði þingmaðurinn breski í fréttaviðtali.
Fabian Hamilton var hér á landi í heimsókn ásamt ...

2. Júlí 2011

UM LÝĐRĆĐI OG SANNFĆRINGU

Birtist í Fréttablaðinu 1.07.11
Fréttabladid hausKolbeinn Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu, veltir upp mikilvægri spurningu í framhaldi af grein minni hér í blaðinu um vegtolla. Þar lýsi ég því hvernig ég hafði fengið í fangið hugmyndir um að ráðist yrði í kostnaðarsamar flýtiframkvæmdir í vegamálum og yrðu þær fjármagnaðar með vegtollum á viðkomandi leiðum. Aldrei hef ég verið áhugasamur um þessa aðferðafræði en málið engu að síður þess eðlis - verið að selja aðgang að vegum, ekki spítölum - að ég kvaðst reiðubúinn að hafa um það forgöngu að því tilskyldu að um þetta yrði samstaða og þeir sem ættu að borga brúsann væru sáttir. Svo reyndist ekki vera og lýsti ég því þá yfir að við yrðum að hlusta á rödd þjóðarinnar. Þá spyr Kolbeinn: "Ef rödd þjóðarinnar á að ráða í þessu máli, gildir það þá ekki um önnur? Mun Ögmundur framvegis fylgja meirihluta í umdeildum málum svo sem um aðild að Nató...

1. Júlí 2011

DÓMSTÓLAR, EVRÓPUSAMBANDIĐ OG LÝĐRĆĐIĐ

Ávarp í tilefni 50 ára afmælis embættis Ríkissaksóknara

...Á þennan heim erum við Íslendingar minntir þessa dagana þegar fulltrúar Efta-dómstólsins segja okkur nú í hverjum fréttatímanum á fætur öðrum að til standi að kanna hvort það standist lög og regluverk hins Evrópska efnahagssvæðis að almeninngur sem á orkufyrirtækin á Íslandi hefði haft rétt á því að veita fjármagni úr opinberum sjóðum inn í fyrirtæki sín. Áhöld séu um að þetta standist markaðslögmál Evrópusambandsins! Lýðræðið - vilji almennigs - er þannig dreginn í efa. Ég spyr: Hvert erum við eiginlega að halda? Hvað afmælisbarnið varðar - embætti Ríkissaksóknara þá - hefur það ekki farið varhluta af ...

30. Júní 2011

VEGA LJÓĐ MENN

Nú gefur heldur betur á bátinn. Þrír kraftakarlar sækja að þér sem mest þeir mega. Þeir Villi, Vilmundur og Stjáni Möller. Átaksmennirnir  vilja veg, eða eins og sagt var í öðru samhengi: Skrifaðu flugturn.
Nú vill svo til að ég hef þurft að fara á Selfoss um langa hríð dóttur minnar vegna. Á leiðinni austur, og raunar á heimleiðinni líka, hef ég verið að skima eftir mannfjöldanum sem þar ætti að vera að vinna, ef trúa skyldi áróðri Villa, Vilmundar og Stjána Möller. Ég skima og skima, en sé hvorki tangur né tetur af mannmergðinni, sem þarna átti að vera. Kannski mennirnir séu í...
Ólína

30. Júní 2011

Á AĐ BANNA KIRKJUNA?

Ég er mjög ánægður með störf þín sem innanríkisráðherra, og þá sérstaklega herferðina sem þú og ríkislögreglustjóri settuð af stað gegn glæpagengjum á borð við Hells Angels. Ég er mjög hlynntur bæði því að lögreglan megi beita forvirkum rannsóknarheimildum gegn þessum samtökum, sem ítrekað hafa brotið á mannréttindum fólks, og sömuleiðis því að banna samtökin hér á landi. Og helst öll svipuð samtök. Hins vegar finnst mér að það megi gera slíkt hið sama við kirkjuna, bæði þá kaþólsku og lútersku þjóðkirkjuna. Það hefur sýnt sig að sama hverju er haldið fram uppi á yfirborðinu, þá ríkir í þessari stofnun mikil glæpahneigð og þá sérstaklega meðal þeirra sem völdin hafa og þá er ...
Magnús Þ. M.

29. Júní 2011

VEGTOLLAVINIR ENN Á FERĐ

Birtist í Fréttablaðinu 28.06.11
Fréttabladid hausMikilvægt er að halda vel til haga málefnalegum þráðum í umræðunni um samgöngumál; flækja þeim ekki saman því það ruglar umræðuna. Einn þráðurinn snýr að skattlagningu umferðarinnar, hvort halda eigi áfram að skattleggja eldsneytið, aðflutningsgjöld bifreiða og svo framvegis til að fjármagna samgöngukerfið eða skattleggja notkun vegakerfisins með veggjöldum. Gjaldtaka fyrir notkun mun án vafa verða ofan á þegar fram líða stundir. Þarna stendur tæknin hins vegar í vegi enn sem komið er. Þannig hafa Evrópusambandsmenn ítrekað frestað breytingum á skattlagningarkerfinu í þessa veru vegna tæknilegra örðugleika. Annar þráður umræðunnar snýr að því hvort fyrrnefndir skattar af eldsneyti og aðflutningsgjöldum eigi allir að renna til samgöngumála eða einnig til annarra...

27. Júní 2011

HÚRRA FYRIR JÓNASI


Jónas Engilbertsson hefur ekið strætisvagni í Reykjavík í rétt 40 ár. Af þessu tilefni hefur hann verið heiðraður af Strætó bs og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, auk þess sem ég sem ráðherra samgöngumála sá ástæðu til að taka sérstaklega á móti honum á Hlemmi að lokinni akstursferð sem markar 40 ára samfelldan strætó akstur...

26. Júní 2011

HVIMLEIĐAR RADDIR FORTÍĐAR

Birtist í Morgunblaðinu 25.06.11
MBL  - LogoÉg hef orðið var við að margir furða sig á framgöngu forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins í tengslum við kjarasamninga. Í stað uppbyggilegs samtals inn í samfélagið hefur málflutningurinn einkennst af gífuryrðum, svikabrigslum og ásökunum af pólitískum toga um »stjórnleysi« og »forystuleysi« ríkisstjórnarinnar. Alveg sama hvað gert er, alltaf er verið að svíkja þá Vilmund Jósepsson og Vilhjálm Egilsson. Þessum neikvæða tón úr ranni SA höfum við ekki átt að venjast í langan tíma og alls ekki nú síðustu árin, í aðdraganda hrunsins þegar Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráðið lágu á spena stjórnvalda, hvöttu þau til dáða og fengu nær undantekningalaust sínu framgengt. Einhvers staðar held ég að ég hafi séð að Viðskiptaráð hafi ...

24. Júní 2011

SPURNING UM EFTIRSPURN


Nýlega sat ég fund dómsmálaráðherra Norðurlandanna. Þar var fjallað um þau málefni sem helst brenna á löggæslu og dómsmálayfirvöldum í hverju landi....Með öðrum orðum, verkefnið væri að gera ungu fólki grein fyrir að glæpaheimurinn væri ekki eftirsóknarverður. Í umræðunni sem þarna spannst var sagt frá hliðstæðri könnun annars staðar frá. Þar var fjallað um orsakir þess að fólk ánetjaðist samtökum ofbeldisfullra ofsatrúarmanna. Vísað var til þess í könnuninni að í Kosovo á Balkanskaga hefðu ofsatrúarsamtök sent umtalsvert fjármagn til að ...

24. Júní 2011

AFTURHALDS-SEGGUR SPURĐUR ÚTÚR

6 spurningar þér, ÖJ, til umhugsunar: 1) Ert þú varðhundur ríkis-valdsins ? 2) Ert þú nómenklatúru kommi ? 3) Ert þú minn hræsnisfulli bróðir ? 4) Ert þú íklæddur kross-brynju bírókrata ? 5) Ert þú vonbrigði okkar nóboddíanna ? (innskot-þá ert þú af ætt stalínista) 6) Ert þú sá sem kemur alltaf með messuklæðin, heilagur á svip ... og vottar þá fyrir daufu aumingja-gæsk-brosi ... til að ljá þannig skítverkum Skjaldborgar-stjórnarinnar tungulipran trúverðugleik ???? 7) Mín sjöunda og því mikilvægasta spurning: Í hvers og í hverra þágu ert þú að vinna Ögmundur Jónasson ???? Þú ert ráðherra, fjandinn hafi það; hættu því...
Nóboddínn í öskustó ríkis-banksteranna.

21. Júní 2011

GUNNAR BIRGISSON, VERKTAKARNIR OG VEGATOLLARNIR

Birtist í Morgunblaðinu 20.06.11.
MBL  - Logo... Auk þess skal minnt á að það eru lítil búhyggindi að láta núverandi vélakost stýra hraða framkvæmda. Þegar flýtiframkvæmdum væri lokið þyrfti síðan nýja innspýtingu. Nær væri að vinna áfram að samgöngubótum á framkvæmdahraða sem er í samræmi við greiðslugetu okkar sem einstaklinga (sbr. vegatolla) og sem samfélags (samanber skatta) til langs tíma. Það sem nú er frábrugðið í vinnubrögðum eins og þau tíðkuðust í aðdraganda hrunsins er að nú tala menn opinskátt um tvær leiðir til fjármögnunar, skattahækkanir eða vegatolla. Áður var einfaldlega sagt: Við borgum þetta seinna - einhvern veginn.

17. Júní 2011

GLEĐILEGA ŢJÓĐHÁTÍĐ!


Í dag halda Íslendingar þjóðhátíð en að þessu sinni voru sögulegar víddir hátíðahaldanna meiri en endranær. Nú minntust menn þess að tvö hundruð ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar og eitt hundrað ár frá því Háskóli Íslands tók til starfa, en lög um stofnun skólans höfðu verið sett árið 1909. Karl Sigurbjörnsson, biskup, lagði út af lífshlaupi og sögulegri arfleifð Jóns Sigurðssonar...Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fjallaði einnig um Jón Sigurðsson í ræðu á fæðingarstað hans, Hrafnseyri við Arnarfjörð. Einnig forsetinn fjallaði um Jón Sigurðsson ...

16. Júní 2011

UMHUGSUNAREFNI

Birtist í Fréttablaðinu 15.06.11
Fréttabladid hausSíðastliðið haust komu til umræðu, og síðar atkvæðagreiðslu, á Alþingi niðurstöður og tillögur rannsóknarnefndar Alþingis sem starfað hafði fyrri hluta ársins samkvæmt einróma samþykkt Alþingis frá 12. desember 2008. Niðurstaða meirihluta þessarar rannsóknarnefndar var sú að látið skyldi á það reyna fyrir Landsdómi hvort fjórir ráðherrar hefðu rækt ráðherraábyrgð sína í aðdraganda hrunsins. Niðurstaða meirihluta Alþingis varð sú að þetta skyldi aðeins gilda um einn ráðherra, fyrrum forsætisráðherra Geir H. Haarde. Tillögurnar um hina þrjá voru felldar. Um þessa atkvæðagreiðslu ræði ég ekki frekar að sinni þótt tilefni væri til. Þetta var meirihlutavilji Alþingis...

11. Júní 2011

UM BÖNN OG BANNFĆRINGU

Birtist í Fréttablaðinu 10.06.11.
FB logo...Það er ekki fyrr en nú, að hillir undir að tekið verði á lögbrotum þeirra, að framleiðendur og auglýsendur tala um mikilvægi samkomulags. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum eru á sama máli og ég. Þau telja áfengissala ganga á frelsi sitt og barna sinna. Frelsi eins getur þannig verið ofríki gagnvart öðrum. Þannig er heimurinn. Ekki svarthvítur eins og skilja mætti af skrifum Guðmundar Andra Thorssonar. En ég veit að hugsun hans getur náð lengra, þótt svo hafi ekki verið í þessum skrifum.

9. Júní 2011

SKÝRARI RANNSÓKNARHEIMILDIR OG AUKIĐ AĐHALD

Birtist á vefritinu Smugunni 08.06.11.
SMUGAN logo...Stefnt er að því að sameina þessar eftirlitsskyldur þannig að árlega fái allsherjarnefnd skýrslu um rannsóknaraðferðir lögreglu, hversu oft þeim var beitt og gegn hvaða brotum. Með þessu móti er lögreglu veitt aukið aðhald, sem aftur skilar sér í því að áframhaldandi traust ríkir um störf hennar...

8. Júní 2011

SJÁLFSTĆĐISMENN Á ALŢINGI: BANDAMENN FJÁRMAGNSINS


...Hvað það varðar eiga þeir góða bandamenn á Alþingi Íslendinga. Það höfum við fengið að heyra í málflutningi sjálfstæðismanna á Alþingi að undanförnu. Efnhags- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram frumvarp um framhald gjaldeyrishafta til fimm ára til varnar íslensku efnahags- og peningakerfi á meðan það stendur höllum fæti. Þessi fyrirhuguðu lög eru skýr skilboð til þessara aðila að ætli þeir sér úr landi með feng sinn þá sé ráðlegt að gera það nú á þeim kjörum sem í boði eru við núverndi gjaldeyrishömlur; þær séu ekki á förum. Samhliða hefur Seðlabanki Íslands hafið ...

8. Júní 2011

Baldur Andrésson skrifar: STÓRVERK-TAKARNIR OG RÍKIĐ

...,,Stórverktakastuðningur" varð eitt meginstefnumál hennar frá upphafi. Var það lesið úr þeirri ,,uppbyggingarstefnu" að leggja megináherslu á fá en gríðarstór, gjaldeyriskrefjandi stórverkefni, sem lítils mannafla krefjast, miðað við tilkostnað. Þetta var kallað að hreyfa við,,hjólum  atvinnulífsins", en markmiðið var að sjálfsögðu að halda opnum smjörholum á almannakostnað  fyrir hálfbrotin og alrotin óreiðufyrirtæki í innri kreppuvanda. Svo langt var gengið að kalla björgunarstarf gagnvart eigendum stórverktaka-blokka ,,atvinnubótastefnu", þótt sýnt væri að björgunin hefði litla sem enga þýðingu sem skammtímasvar við atvinnuleysi...

7. Júní 2011

GAMLAR GLĆĐUR

Ákæran er pólitísk, það er rétt.  Það var Alþingi sem samþykkti að ákæra fyrrverandi forsætisráðherra. Réttarhöldin sjálf eru hins vegar ekki pólitísk. Réttarhöldin eru í samræmi við lög. Skiptir í þessu sambandi engu þótt saksóknari  væri sjálfstæðismaður og verjandinn vinstri grænn. Að tala um pólitísk réttarhöld er skot yfir markið. Önnur spyrna fór líka langt yfir. Það var þegar fyrrverandi forsætisráðherra kenndi ykkur um ákæruna, þér, fjármálaráðherra og óháðum þingmanni af Suðurlandi. Þetta feilskot var óskiljanlegt í gær, en skýrðist nokkuð í dag, þegar Ingibjargararmur Samfylkingarinnar sté sameinaður fram ...
Ólína

5. Júní 2011

Á AĐ RUKKA VIĐ SJÚKRARÚMIĐ?

Sagt er frá nýju lyfjafrumvarpi sem liggur fyrir Alþingi í fréttum fjölmiðla í dag. Sett verði þak á lyfjakostnað sjúklinga. Fínt. En munu allir hagnast á þessu nýja þaki? Getur verið að til standi að láta sjúklinga sem lagðir hafa verið ínn á sjúkrahús borga á meðan þeir liggja inni? Þetta yrði mikil afturför og verður að upplýsa um. 
Jóhannes Gr. Jónsson

5. Júní 2011

BAKHJARLAR SJÓMANNA


Sjómönnum eru sendar bestu kveðjur í tilefni Sjómannadagsins. Það var ánægjulegt og hátíðlegt að vera viðstaddur hátíðlega athöfn við minningaröldurnar í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík í morgun. Áhöfn norska varðskipsins Sortland stóð heiðursvörð ásamt starfsmönnum Landhelgisgæslunnar, lagður var krans til minningar um þá sjómenn sem hafa farist á sjó. Viðstaddir voru... Síðdegis ávarpaði Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra útifundi í Reykjavík þar sem hann lýsti því yfir að svo lengi sem hann fengi ráðið myndu Íslendingar  ekki láta fiskimiðin af hendi, hvorki til ríkjasambanda né fyrirtækja. Ragnar Árnason, prófessor  í hagfræði ávarpaði einnig fundinn þar sem hann...

3. Júní 2011

Kári skrifar: HEFUR NÝTING FISKISTOFNA MYNDAĐ EIGNARRÉTT ÚTGERĐAR-MANNA?

...Mjög greinir menn á um það hvort íslenska þjóðin eða íslenska ríkið sé eða hafi verið eigandi aflaheimildanna sem um ræðir. Ýmsir íslenskir lögspekingar hafa séð á því öll tormerki að þjóðin gæti talist réttur eigandi í lagalegum skilningi. Í því sambandi virðist þó gleymast að lög eru ekki náttúrufyrirbæri sömu gerðar og t.d. eldgos sem lúta lögmálum eðlisfræði, heldur hafa þróast í krafti ákveðinnar rökræðu og hugmyndafræði í gegnun ár og aldir. Á sama hátt er lögfræði ekki kyrrstæð fræðigrein (þótt íhaldssöm sé) heldur má þróa áfram á ýmsa vegu. Sumir þessara íslensku lögspekinga hafa og haldið því fram að veiðiheimildirnar hafi ekki verið í eigu neins áður en lögin um stjórn fiskveiða voru sett og aflaheimildir bundnar við kvóta. Með þeirri aðgerð hafi hins vegar orðið til einkaeignarréttur á auðlindinni. Þetta er fjarstæða. ...

3. Júní 2011

ORĐLJÓTUR FORMAĐUR SJÁLFSTĆĐISFLOKKSINS

Birtist í Morgunblaðinu 02.06.11.
MBL -- HAUSINN...Þá stendur eftir  það sem frétt Morgunblaðsins í gær fjallaði raunverulega um: Formaður Sjálfstæðisflokksins skammar VG fyrir að slíta ekki stjórnarsamstarfinu. Þessi afstaða er í fullu samræmi við fyrri ummæli formannsins en við atkvæðagreiðslu á Alþingi um vantraust á sitjandi ríkisstjórn sagði Bjarni Beneditksson að engu máli skipti á hvaða forsendum þingmenn greiddu tillögu hans um vantraust atkvæði bara að þeir samþykktu hana; með öðrum orðum, bara að menn létu nota sig til að koma ríkisstjórninni frá. Á hvaða forsendum það væri gert eða hverjar yrðu afleiðingarnar skipti engu máli. Góftuskuhugsunarháttur virðist ...

2. Júní 2011

NÝIR OG NAUĐSYNLEGIR SENDIHERRAR

Birtist í Fréttablaðinu 01.06.11.
Fréttabladid hausNýverið hitti ég í Alþingishúsinu nýja sendiherra. Það væri ekki í frásögur færandi nema af því að þeir hafa sérstakt og brýnt hlutverk í samfélagi okkar: Að kynna samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks meðal jafningja sinna undir formerkjum hagsmunasamtaka fólks með þroskahömlun. Sjö einstaklingar sóttu námskeið sem veitti þeim innsýn í sáttmálann sem Ísland undirritaði 30. mars 2007. Hann fjallar um það hvernig á að gæta þess að réttindi fatlaðs fólks í landinu séu tryggð. Og hver er betur til þess...

2. Júní 2011

MIGIĐ Í SALTAN SJÓ

Seinheppnir útvegsmenn. Nú hræða þeir landslýð með því að 260 manns í  nokkrum verstöðvum muni missa vinnuna þegar áhrif kvótafrumvarpa ríkisstjórnarinnar eru fram komin. En hver hafa áhrif núverandi kvótakerfis verið? Förum vestur á firði. Við byrjum á Patreksfirði, förum á Tálknafjörð og svo á Bíldudal. Flytjum okkur yfir á Þingeyri 
og Flateyri. Núverandi kvótakerfið hefur tekið sinn toll af þessum byggðum. Sama er upp á teningnum við Djúp. Í Bolungarvík, í Hnífsdal, á Ísafirði og í Súðavík hafa áhrif núverandi kvótakerfis verið hrikaleg síðustu árin. Kvótatilfærsla frá Vestfjörðum hefur að vísu skilið eftir nokkra milljarða í höndum einkaaðila sem hafa braskað með  þá, eða sett á bók. 1100 til 2000 störf hafa hins vegar glatast í ...
Ólína

31. Maí 2011

ÓSKAĐ VIĐBRAGĐA

Ég óska efti viðbrögðum frá þér vegna pistils Steinars Immanuels, sem þú birtir á síðu þinni.
Kveðja,
Birgir Björgvinsson

30. Maí 2011

OFBELDI Á VEGUM RÍKISINS!

...þvi ábyrgð stjórnvalda er mikil í þessu máli, hér er ekki hægt að láta gjaldþrota fyrirtæki - eða endurreistar kennitölur ráðast á almenning í krafti sýslumanna og stjórnvalda - það ert þú sem getur stöðvað þessa vitleysu og ég hvet þig til að taka alvarlega á þessu máli og stöðva innheimtuaðgerðingar sem eru byggðar á sandi einum saman. Byggðu grunn sem fólkið og fjármálafyrirtækin geta byggt á í sameiningu sá grunnur er ekki til, en ekki grunn sem byggður er á ofríki og ofbeldi fjármálastofnananna - já ofbeldi - hótunum og græðgi. Það er kominn tími á stopp áður en uppúr síður.
Steinar Immanúel Sörensson

29. Maí 2011

STÖĐVIĐ ESB SKRÍPALEIKINN!

...Ef menn hafa ekki tekið eftir því þá er Evrópusambandið að þróa sjávarútvegsstefnu sína með okkar stjórnun og veiðireynslu að leiðarljósi, eflaust til að gera okkur auðveldar fyrir vikið að ganga í snöruna. Nei Ögmundur minn góður, nú er lag að ganga á milli bols og höfuðs og skera á samstarfið, málið er nefnilega að það verður erfiðara með hverjum deginum að ætla að ganga til næstu kosninga og að segja fólkinu að höfuðandstæðingarnir séu þeir sem vilja í ESB...
Óskar K Guðmundsson fisksali.

29. Maí 2011

EIGNARRÉTTINDI EĐA MANNRÉTTINDI?


Merkileg umræða er að dragast upp á pólitískan himininn, ekki bara hér á landi heldur í Evrópu og víðar um lönd í kjölfar fjármálakreppu sem bankar uppá. Þessi umræða snýst um forgangsröðun þegar þrengir að. Hvor á að njóta forgangs  innistæðueigandinn eða öryrkinn? Eða með öðrum orðum, á að forgangsraða í þágu eignarréttinda eða mannréttinda?...Trúin á heilagleika einkaeignarréttarins hefur oft valdið mér miklum heilabrotum. Þannig minnist ég þess þegar deilur stóðu sem hæst fyrir fáeinum árum um stofnfé sparisjóðanna sem stofnfjáreigendur vildu sumir hverjir gjarnan maka krókinn á. Um stofnféð giltu ...

28. Maí 2011

ŢARF JÓHANNA MEIRI VÖLD?

Mér fannst  gott gagnrýnið bréf Árna V hér á síðunni hvað varðar þær hugmyndir í Stjórnlagaráði að þingið kjósi forsætisráðherra beint . Þetta er að mínu mati sama valdstjórnarhyggjan og birtist í hugmyndum sem núna liggja fyrir þinginu og ganga út á  að efla vald forsætisráðherra. Ég er því algerlega andvígur. Það á að draga úr slíku valdi og efla lýðræðishugsun með þingmönnum. Þessar hugmyndir Stjórnlagaþings snúa að ...
Grímur

28. Maí 2011

ENN UM NJÓSNIR

...Erlendum lögreglumönnum er ekki heimilt að starfa á Íslandi nema með leyfi stjórnvalda, þannig að ef þetta var löglegt þá er það vegna þess að Ríkislögreglustjórinn heimilaði það. - Nema hvað að ekki er heimilt að stunda forvirkar rannsóknir á Íslendingum. Þar með hlýtur þetta að hafa verið ólöglegt, nema að Saving Iceland hafi verið grunað um glæpastarfsemi,og lögreglan hafi haft gögn til að rökstyðja slíkan grun. Hvernig getur þú rökstutt að ...
Símon

28. Maí 2011

HVENĆR FÁ ÖRYRKJAR SÍNA KJARABÓT?

Hvað veldur því að öryrkjar fái ekki hækkun bóta sinna um næstu mánaðarmót eins og þorri landsmanna fær samkvæmt nýjustu kjarasamningum?...
Steinar Immanúel Sörensen

27. Maí 2011

VILLULJÓS FRÁ STJÓRNLAGARÁĐI?

Nú er stjórnlagaráðið farið að birta hugmyndir sínar. Í dag var rætt um það í fjölmiðlum að þingið myndi kjósa forsætisráðherra. Markmið breytingarinnar var að styrkja aðhaldshlutverk þingsins. Vandinn í dag er sá að þegar ráðherrar eiga að svara til ábyrgðar gagnvart þinginu hitta þeir fyrir pólitíska samherja sína því framkvæmdavaldið situr í skjóli þingmeirihluta. Þá má spyrja hvernig heimurinn verður ef nýja tillagan gengur eftir - hvað hefur þá breyst í þessu tilliti? Það breytist nákvæmlega ekki neitt. Þetta er enn eitt villuljósið sem ...
Árni V.

24. Maí 2011

ĆĐRULEYSI OG YFIRVEGUN


Það var fróðlegt að heimsækja þau svæði sem verst hafa orðið úti vegna eldgossins í Vatnajökli en í dag fór ég í kynnisför þangað ásamt forsætisráðherra og ráðuneytisfólki í innanríkisráðuneyti. Það var ríkislögreglustjóri, sem hefur forræði yfir almnnavörnum, sem skipulagði ferðina ásamt sínu samstarfsfólki.Við heimsóttum aðgerðarmiðstöðvarnar á Hellu og Kirkjubæjarklaustri og áttum þar fundi með fulltrúum þeirra aðila sem koma að björgunarstarfi á vettvangi. Það var traustvekjandi að sjá og finna hve vel ...

22. Maí 2011

AĐ SKILJA OG MISSKILJA

Eftir að hafa lesið svar þitt við grein Árna sem birt var á Smugunni þá efast ég um að þú skiljir að fullu hversu alvarlegt málið er... Það er nokkuð ljóst að mál "Mark Kennedy" sýnir og sannar að forvirkar persónujósnir hafa verið stundaðar á Íslendingum á Íslandi, þrátt fyrir að það sé ekki löglegt. Það virðist enginn bera ábyrgð.
Eigum við að trúa því að þessar njósnir hafi ekki verið í samstarfi við Ríkislögreglustjóra? Ef enginn vissi neitt, hver ber ábyrgð á þvílíku klúðri? - Mun fyrirhugað frumvarp þitt um forvirkar ...
Símon Falkner

21. Maí 2011

GRUNDVALLARBREYTING: TIL VARNAR MANNRÉTTINDUM GEGN GLĆPUM

Birtist á vefritinu Smugunni 20.05.11
SMUGU sitelogo...Skilaboðin með þessari reglugerð eru skýr: Við beitum öllum tiltækum ráðum til að sporna við glæpum með því að heimila sérstakar rannsóknaraðferðir í baráttu gegn glæpasamtökum og einstaklingum sem stunda grófa glæpi og brjóta niður mannréttindi annarra. Hins vegar er ekki heimilt að beita slíkum rannsóknaraðferðum gegn grasrótarsamtökum eða hópum sem stunda pólitískt andóf. Sem dæmi má nefna að nú þegar reglugerðin tekur  gildi er skýrt að ekki eru heimildir fyrir starfsemi flugumanna á borð við breska lögreglumanninn Mark Kennedy sem tók þátt í mótmælum á Kárahnjúkum árið 2005. Þarna er því um grundvallarbreytingu að ræða.

21. Maí 2011

TIL VARNAR GRASRÓTARLÝĐRĆĐI

Birtist á vefritinu Smugunni 18.05.11
Árni Finnsson skrifar sérkennilega grein á Smuguna í tilefni skýrslu ríkislögreglustjóra vegna fyrirspurnar minnar um breska flugumanninn Mark Kennedy. Í skýrslu ríkislögreglustjóra kemur fram að íslenska lögreglan fékk upplýsingar erlendis frá um mótmælin við Kárahnjúka en lögreglan hafi ekki upplýsingar um hvernig þessar upplýsingar voru fengnar.Um leið og skýrsla ríkislögreglustjóra var sett á vefinn sendi ég frá mér yfirlýsingu sem birt var á vef innaríkisráðuneytisins og komu efnisatriði hennar að einhverju leyti fram í fjölmiðlum. Þóttu mér skilaboðin þar vera svo skýr að enginn þyrfti að velkjast í vafa um afstöðu mína. Ekki er að skilja á skrifum Árna Finnssonar að svo hafi verið. Hann segir mig ekki gera mér „neina rellu"vegna...

19. Maí 2011

VÍTT SJÓNARHORN Í MANNRÉTTINDABARÁTTU EĐA...


...Hið alvarlega í þessu eru lögbrotin í sínu félagslega samhengi. þannig skoðuð eru þau hreinlega „tilræði við lýðræðið" einsog ég orðaði það í yfirlýingu á vef Innanríkisráðuneytisins sem var birt samhliða skýrslu ríkislögreglustjóra um málið. Skýrslan var unnin í framhaldi af fyrirspurnum mínum til embættisins um hvort íslensk lögregluyfirvöld hafi haft vitneskju um veru breska lögreglumannsins hér á landi í tengslum við mótmæli gegn Kárahnjúkavirkjun árin 2005 og 2006. Er því svarað á þann veg að ekki hafi komið fram upplýsingar sem geri kleift að skera úr um hvort Kennedy hafi verið hér á landi í samvinnu eða með vitund lögreglunnar. Hins vegar kemur einnig fram - og er það ekki síður mikilvægt - að íslensk lögregla hafi fengið upplýsingar erlendis frá um mótmælin á Kárahnjúkum, án þess þó að ...

19. Maí 2011

ÓSKAĐ EFTIR VIĐBRÖGĐUM

....Það væri mjög áhugavert að heyra viðbrögð þín við þessum athugasemdum. http://www.smugan.is/pistlar/penninn/arni-finnsson/nr/5953  ... 
Gunnlaugur Fr.

15. Maí 2011

ANNAR ŢUSAĐI, HINN SAUP HVELJUR

...Ég vil hins vegar þakka þér svarið við skrifum Vilhelms Vilhelmssonar við lesendabréfi hér á síðunni. Þú hefðir líka þurft að svara gagnrýnisleysunni í samtali þeirra Egils Helgasonar og Hauks Más Helgasonar í Silfrinu fyrir viku. Haukur þessi þusaði, fulkomlega úr takti við allan raunveruleika, Egill nikkaði og saup hveljur eins og hans er vandi, og fannst væntanlega að hann væri að taka undir með mannréttindatali sem hann EKKI var að gera. Hann var bara eins og hver annar þorskur á þurru landi. Þetta tal var ekki til hjálpar mannréttindum - þvert á móti . Sjálfur vil ég róttæka endurskoðun á ...
Jóhannes Gr. Jónsson

13. Maí 2011

ÉG MANA ŢIG...

...Ég geri þær kröfur til þín og þinnar samvisku að þú setjir þig inn í þessi mál, talir við þá hópa í samfélaginu sem þessi málefni þekkja. Ég tel að um leið og þú kynnist þeirri stöðu sem þeir einstaklingar (MÆÐUR OG FEÐUR OG BÖRN) eru í dag á Íslandi þá sjáir þú hversu alvarlegt vandamál þetta er og hversu margir líða fyrir það. Það er fyrir löngu búið að sýna fram á hvernig eigi að leysa stóran hluta þessara vandamála og gamla frumvarpið hennar Rögnu notaðist við meiripartinn af þeirri reynslu, rannsókum nágrannaþjóða okkar. Íslendingar eru í engu öðruvísi en Norðurlandaþjóðir og eigum þarafleiðandi ekki að komast að annarri skoðun en þau lönd....
Birgir Grímsson

13. Maí 2011

BURT MEĐ ŢIG!

Ögmundur farðu að hætta ! Jæja Ögmundur þú sem ráðherra mannréttinda hér á Íslandi, situr í sama sal og Björgólfur Guðmundsson sem aldrei hefur gert neytt annað en að stela og ljúga frá okkar samfélagi. Þú situr nú í sama sal og hann og heldur að þú sért eitthvað betri stjórnmálamaður en flestir þeir sem þú ert með á Alþingi. Þú ert jafn blindur og SIÐLAUS eins og flestir stjórnmálamenn....
Þórir Karl Jónasson

13. Maí 2011

ENGIN GLĆPAGENGI TIL ÍSLANDS

Daginn. Í guðana bænum styrkið löggæslu í landinu, fjölga í lögreglu, og með einhverjum ráðum að loka landamærum fyrir erlendum glæpagengjum, þrátt fyrir Schengen.
Sigrún Gunnlaugsdóttir

13. Maí 2011

SAMKENND Í HÖRPU


Við áttum það sameiginlegt við Grímur Thomsen að finnast óþægilegt að stíga inn í Roskilde kirkju -  dómkirkuna dönsku suður af Kaupmannahöfn.... Alltaf þessi tilfinning um misnotkun, valdníðslu og yfirgang....Sama kom upp í hugann þegar ég kom í Hörpuna í kvöld ...Hinu vil ég ekki leyna að ég hreifst af Hörpu og því sem þar fór fram innandyra. Ég held ég muni aldrei gleyma þessari stund í Hörpunni og var þá áhrifaríkast þegar risakór og margir allra bestu söngvarar þjóðarinnar sungu þjóðsönginn okkar. Salur og svalir tóku undir...

12. Maí 2011

ŢÚ VELDUR VONBRIGĐUM

Ég hef lengi stutt VG og þig sérstaklega, þó ég hafi aldrei verið flokksmaður, þar sem ég taldi flokkinn og þig sérstaklega vera málefnafólk sem byggði pólitík sína á prinsippum en ekki hagsmunum. Stjórnartíð ykkar hefur verið ein löng vonbrigðisstund og fátt jafn slæmt eins og tíð þín sem Innanríkisráðherra (eins og ég hafði gert mér háar vonir um hlutskipti þitt í því embætti). Með nýjustu gloríu þinni í umræðunni um innflytjendamál ertu búinn að fylla mælinn og ég tel mig knúinn til að svara nokkrum atriðum í nýlegri bloggfærslu þinni um málaflokkinn. Þú segir...
Vilhelm Vilhelmsson

11. Maí 2011

FÓLK EINS OG ŢÚ GERIR MÁLIĐ FLÓKIĐ

...Ögmundur, þú segir að útlendingavandamálið sé margslungið og flókið, en málið er að það er flókið og stórhættulegt, vegna þess að fólk eins og þú, gerir það flókið og stórhættulegt! Það er ekki að furða að illa fer þegar við höfum stórruglaða sjálfþjónandi þjóðníðinga i forustu stjórnvalda.  Maður hefði ætlast til að það fólk sem þóttist vera að berjast gegn inngöngunni í EES og síðar Schengen, eyddu tíma sínum frekar til að ganga úr þeim samkundum, en að gerast þjónar þeirra, gegn hagsmunum íslensku þjóðarinnar. Þú hrósar fyrirrennaranum þínum sem Sjálfstæðisflokkurinn skildi eftir sig í Dómsmálaráðuneytinu, um að hún hafi byrjað á því sem þú ætlir nú að klára. Þú hrósar einnig Alþjóða Rauðakrossinum fyrir að...
Helgi   

10. Maí 2011

ÍSLAND OG AĐKOMUFÓLK


...Á hinn bóginn er einnig á flótta undan einræðis- og ofbeldisstjórnum enn fleira fólk sem hefur þurft að sæta ofsóknum, kúgunum og í sumum tilvikum pyntingum í heimalöndum sínum. Þetta fólk ber okkur skylda til að skjóta skjólshúsi yfir og það sem meira er, taka opnum örmum.
Þarna þarf að greina á milli. Það getur verið vandasdamt verk og stundum óþægilega tímafrekt. Unnið er að því að stytta þennan tíma en það breytir því ekki að þetta verk þarf engu að síður að vinna.
Ég hef boðað endurmat á stefnu okkar...

10. Maí 2011

NÓGIR PENINGAR Í BANKA OG ESB

Þú segir að ekki sé til nægt fjármagn í ríkissjóði þegar fjármagna þarf vegaframkvæmdir. Ef að þetta væri rétt, Hvernig stendur þá á því að þegar að GJALDÞROTA bönkunum og sparisjóðum með axlarbönd og belti er lagt fé þá eru til nógir peningar fyrir því? Hvernig stendur þá á því að þegar að utanríkisráðherra Íslands er á fullu í aðildarviðræðum við Evrópusambandið þá eru til nógir peningar fyrir öllum slíkum ferðum og uppihaldi og öllu slíku...
Jón Þ.

10. Maí 2011

OFBELDI

Þvílíkt og annað eins ofbeldi að ráðast á heimili alþingismanna! Okkur er öllum brugðið og vonum að þessir glæpamenn náist sem fyrst.
Guðrún Sæmundsdóttir

10. Maí 2011

BRÁĐUM BÚINN AĐ FÁ NÓG

Ætla að lýsa stuðningi mínum við ályktun Skagfirðiga og vannvirðingu mína við framkomu flokksvaldsins gegn þremeningunum sem vilja standa við fokkssamþykktir. Er búinn að styðja vinnstri alla tíð, orðinn 61árs en er að verða búinn að fá nóg. Steingrímur, ættir þú ekki bara að ganga í Samfylkinguna?
Guðmundur Einarsson

8. Maí 2011

EYJU - VIĐTAL


Eyjan 07.05.11
Sjá viðtal: http://vefir.eyjan.is/vidtalid/2011/05/07/ogmundur-jonasson/
... Mér er mikil eftirsjá að félögum mínum sem yfirgefið hafa þingflokk VG. En við skulum ekkert gefa okkur að þau verði á öndverðum meiði við ríkisstjórnina í atkvæðagreiðslu í þinginu á komandi misserum. Við skulum ekki gleyma að þau voru að mótmæla stjórnarstefnunni með því að samþykkja vantraust á ríkisstjórnina. Þeim fannst við hafa brugðist sem velferðarstjórn... Verkefnið nú er að draga velferðarfánann hærra upp eftir stönginni. Eftir því sem hann fer hærra og eftir því sem við stöndum betur í fæturna gagnvart frekju efnamanna í þjóðfélaginu þeim mun traustari verður ríkisstjórnin og meirihlutinn á þingi....

8. Maí 2011

VARAĐ VIĐ FORINGJARĆĐI

Í umræðu á þingi um nýtt stjórnarráðsfrumvarp sagði Jóhanna að mótbárur væru ekki svara verðar því þær væru fyrir neðan sína virðingu og þingsins. Mótbárurnar sneru reyndar að því að með því að færa forsætisráðherra meira samræmingar- og verkstjórnarvald gæti verið að festa margumtalað foringjaræði enn frekar í sessi. Nú skil ég vel þörfina á samstarfi milli ráðuneyta og að unnnið sé skipulega sem vísað er til sem markmið þessa frumvarps. Viðbrögð núverandi forsætisráðherra sýna þó að maður á alltaf að vantreysta fólki fyrir valdi - sérstaklega fólki sem ...
Þór

8. Maí 2011

SKAMMIST YKKAR

Þið stjórnarliðar berið ekki meiri ábyrgð á Alþingi en almennir þingmenn. Þess vegna er svosem ekki ástæða til að hamast meir á þér en öðrum með ákæruna á Geir Haarde. En það mál er allt að þróast með þeim hætti að það er öllum þeim til ævarandi skammar sem sitja á Alþingi og sérstaklega þeim sem voru að greiða atvkvæði út og suður með þeim hætti að einn maður sat eftir...
Elsa

8. Maí 2011

ALLT SKOĐIST

Skoðum allt með opnum huga. Hver veit. http://www.dv.is/frettir/2011/5/7/gaf-krabbameinssjukum-syni-sinum-kannabis/
Viðar Sigurðsson

7. Maí 2011

Baldur Andrésson skrifar: ENDURNÝTTUR STALÍN-BRANDARI Á ÍSLANDI

Sem ungur vinstrianarkisti og andófsmaður þvældist ég til Sovét og átti þar námsdvöl í  ár,1971-72. Þar heyrði ég góða, trúverðuga  sögu, staddur í stórri sundlaug: Í tíð Stalíns átti að slá tvær flugur á bakka Moskvufljóts sem borgin ber nafn eftir. Ákveðið var að ryðja úr vegi miðaldakirkju, miklu byggingarlistaverki, ,,táknmynd úrkynjaðs kirkjuvalds". Í staðinn átti að reisa svo háreista Leninínstyttu að hún yrði veraldarundur vegna umfangsins, tímatákn.
Kirkjan var rifin. Grunn átti að grafa fyrir níðþungu myndlistaverkinu, Lenínbákninu, en undir átti að ...

7. Maí 2011

TILLAGA UM SKATTAHĆKKUN... SEINNA

Hver er þín skoðun á þessari þingsályktunartillögu um framkvæmdir sem nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram: http://www.althingi.is/altext/139/s/1073.html Er raunhæft að ýta undir framkvæmdir með útgáfu ríkisskuldabréfa, eins og hér er lagt til?
Sverrir

6. Maí 2011

VEGGJÖLD Í LEIĐARA

Birtist í Mbl. 05.05.11
MBL  - Logo...Ég vil enga opna tékka sem síðar féllu á skattgreiðendur eða kæmu fram í niðurskurði, til dæmis til velferðarmála. Í þriðja lagi vil ég benda á í framhaldi af leiðaraskrifum Morgunblaðsins í gær, að nálgun höfundar er mjög skyld vegatollahugsuninni að því leyti að horft er til tiltekinna svæða sem eigi að vera sjálfsaflandi. Bent er á að skattar sem innheimtir eru vegna umferðar á þessum svæðum geri gott betur en að standa undir kostnaði við framkvæmdir á þeim. En mér er spurn, hvort þannig viljum við hafa það, að horft sé til einstakra svæða og þau gerð að efnahagslega sjálfstæðum einingum. Þetta væri fráhvarf frá þeirri hugsun sem við hingað til höfum almennt byggt á og gengur út að fólk á fáförnum svæðum búi við viðunandi samgöngur...

5. Maí 2011

AFREKSVERK ÖRYRKJABANDALAGSINS

ÖBÍ 50 áraÁvarp á hálfrar aldar afmæli ÖBÍ 5. maí  2011
...Ég sat um daginn fund með fulltrúum frá notendastýrði þjónustu og eftir því sem ég hlustaði meira hugsaði ég: Ef ég byggi við alvarlega hreyfihömlun eða fötlun og þyrfti að reiða mig á aðra þá myndi ég vilja láta tala mínu máli á þann hátt sem þarna var gert. „Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður...." Nálgunin var sú að skýra það fyrir mér að þetta snérist ekki bara um frelsi og sjálfsforræði þeirra einstaklinga sem í hlut eiga heldur að samfélaginu öllu. Mér var gert skiljanlegt án þess að þau orð væru beinlínis notuð að vildi samfélagið skilgreina sig sem mannréttindaþjóðfélag þá yrði það að ...

3. Maí 2011

SIĐBÓTARKRAFAN


Ávarp í Hátíðarsal Háskóla Íslands í upphafi Prestastefnu

...Þannig er ég sannfærður um að íslenskt stjórnmálalíf stendur á krossgötum ekkert síður en kirkjan telur sig gera. Á vettvangi stjórnmálanna þykir mér margt benda til þess að stofnanakerfið - það er að segja stjórnmálaflokkarnir - muni meira og minna riðlast á nýrri lýðræðisöld. Fólk kann áfram að vilja skipa sér í fylkingar og flokka og eflaust að einhverju marki heyra stofnunum til, en sú samstaða sem fólk kemur til með að vilja sjá, mun snúa að markmiðum og  að boðskap en ekki stofnunum. Það verður með öðrum orðum ekki spurt um stuðning við flokk heldur við stefnu og við hugsjón. Fólk mun spyrja ..

2. Maí 2011

NÓG KOMIĐ!

...Tek undir með þér vegna orða sem formaður bankaráðs Landsbankans sagði í vikunni um að laun í Landsbankanum væru ekki samkeppnisfær við aðra banka. Þessi orð bankaráðs formannsins eru skandall. Í hvaða gervi - veröld búa þessir menn? Nei, það er komið nóg, hingað og ekki lengra. Ef þessir menn eru eitthvað leiðir þá verða þeir að fara frá...
Ólafur Hallgrímsson

2. Maí 2011

ÖNNUR NÁLGUN?

Held það væri skynsamlegt að umorða kenninguna: Lægstu laun verði aldrei minna en þriðjungur hæstu launa.
HreinnK

1. Maí 2011

Á 1. MAÍ MEĐ LÖGREGLUMÖNNUM Í NESKIRKJU


...Í stað þess að setja þak á hámarkslaun, eða gólf undir lægstu laun, ættum við að bindast fastmælum um að hæstu laun verði aldrei hærri en þreföld lægstu laun. Kjarabætur eins hefðu þannig áhrif á kjarabætur annars....Þó gerum við meiri kröfur til lögreglunnar en allra annarra. Því lögreglunni felum við vald umfram alla aðra  og slíkt vald er alltaf vandmeðfarið. Líka valdið sem til er stofnað í góðum tilgangi, vald til að berjast gegn ofbeldi og vernda samfélagið. Vald kallar því á aðhald. Því meiri heimildir sem lögreglu eru veittar þeim mun meira eftirlit þarf lögreglan sjálf að þola...

1. Maí 2011

HVAR VARSTU?

Þú sem elskar lýðræðið, varst tilbúinn til að fórna pólitískri framtíð þinni fyrir að koma í veg fyrir að þjóðin tæki á sig óyfirstíganlega klafa frá ruglaðri peningalegri elítu EVRÓPU. Þar sem formúla arðrána er búin til í tölvuborðum bankaelítunnar örlítil míkróamper í tölvu verða allt í einu auðlindir þjóða. Hvar varstu þegar hið nýja fjölmiðla frumvarp fór í gegnum þingið, eða regluverk Evfrópusambandisins um heilsuefni ...
Viðar Sigurðsson

29. Apríl 2011

Einar Ólafsson skrifar: RAUNHAGKERFI!

...Ég veit alveg hvað er átt við með „raunhagkerfi": það er hið kapítalíska hagkerfi sem byggist á gróðahagsmunum einstaklinga. Hlutverk Bankasýslu ríkisins er m.a. „að undirbúa og vinna tillögur um sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum". Auk þess mun henni ætlað að vera einhverskonar milliliður milli stjórnmálanna og fjármálafyrirtækjanna til að koma í veg fyrir of mikil afskipti stjórnmálamanna af fjármálastofnunum. Þar höfum við kannski ýmis víti að varast, en það var þó fyrst þegar bankarnir voru einkavæddir og losnuðu undan stjórnmálamönnunum, sem þrátt fyrir allt (helmingaskipti, klíkuskap, fyrirgreiðslu og allskyns spillingu) báru einhvern vott af samfélagslegri ábyrgð, sem ballið byrjaði. Ég á ekki von á að félagsleg sjónarmið eigi uppá pallborðið hjá núverandi bankaráði Landsbankans ...

28. Apríl 2011

UM SÍMHLERANIR

Í fyrrakvöld horfði ég á mjög svo athyglisvert viðtal í Sjónvarpinu við forstöðumann greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Þar fjallaði hann m.a. um hinar svonefndu forvirku rannsóknarheimildir sem embættið hefur að undanförnu lagt mikla áherslu á að fá. Í viðtalinu var hins vegar lítið fjallað um hvaða takmarkanir yrðu á notkun þessar heimilda, einna helst skildist mér á forstöðumanninum að það yrði hlutverk þeirra dómstóla sem veittu rannsóknarheimildirnar hverju sinni að meta nauðsyn þeirra og hafa þannig eftirlit með notkun þeirra. Saga símhlerana hér á landi sýnir okkur hins vegar að...
Guðmundur J. Guðmundsson

28. Apríl 2011

UM SKULDIR BANKA

Vert að lesa, http://www.vald.org/greinar/110402/
Björn Fóðason

28. Apríl 2011

RAUNHAGKERFI?


Okkur sem ekki erum í „raunhagkerfinu"  brá í brún þegar formaður bankaráðs Landsbankans - sem er í eigu þóðarinnar - sagði í fréttum RÚV í kvöld að bankastjóri bankans væri ekki með eins há laun og bankastjórar annarra banka og stórfyrirtækja í „raunhagkerfinu".  Nýlega vorum við upplýst um að viðkomandi stjórar eru með himinháar tekjur - langt umfram það sem sanngjarnt má heita. Þetta gerði það að verkum að Landsbankinn væri ekki ...

27. Apríl 2011

UM GÓĐ ORĐ OG PÓSTLISTA

Takk fyrir síðast Ögmundur. Orð þín um Ásmund Einar Daðason voru yfirveguð og drengileg. Ég hef fyrir mistök dottið út af áskifandalista þínum.
Sigurður Þórðarson

27. Apríl 2011

INGÓLFUR MARGEIRSSON KVADDUR


Birtist í DV 20.04.11.
Í pólitíkinni stóð Ingólfur Margeirsson staðfastur í kratismanum. Almennt frekar í nöp við pólitíkina þar til vinstri og Íhaldið vildi hann ekki. Þeir sem trufluðu siglingu jafnaðarmannaskútunnar áttu ekki upp á pallborðið hjá vini mínum. Ekki heldur undirritaður ef því var að skipta. Þá fékk ég að finna til tevatnsins. En sama hvað Ingó skammaði mig fyrir villukenningar, truflaði það aldrei vináttu okkar. Hún átti dýpri rætur en svo. Við Ingólfur Margeirsson höfum verið ...

26. Apríl 2011

KRAFAN UM RÉTTTRÚNAĐ


... Þarna sannaðist að sumt fólk missir fótanna þegar sagt er eitthvað sæmilegt um fólk í „hinum söfnuðinum". Þá er eins og menn viti ekki hvaðan á þá stendur veðrið; ekki lengur fast land undir fótum; ekki lengur hreinar línur... Dapurlegur er síðan ritstjórnarpistill Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur á Smugunni, sem mér skilst að vilji vera málgagn róttækrar vinstristefnu...

25. Apríl 2011

ANDRÉS BJÖRNSSON: UM HORNSTEINA LÝĐRĆĐIS

Andres Bjornsson 2Á páskadagsmorgun var endurtekinn á Rás 1 í Ríkisútvarpinu þáttur Gunnars Stefánssonar um Andrés Björnsson, fyrrum útvarpsstjóra og menningarmann. Þátturinn, sem fyrst var fluttur á páskadagsmorgun árið 1999,  var vel gerður eins og annað sem frá Gunnari Stefánssyni kemur...Í þættinum um Andrés Björnsson er að finna dæmi um ljóðaupplestur hans sem bjó yfir mjög óvenjulegri dýpt og næmni. Þar voru einnig ræðubrot, á meðal annars úr áramótahugvekjum Andrésar. Undir lok þáttarins var kafli úr áramótahugvekju Andrésar, frá árslokum 1984...

24. Apríl 2011

...EĐA ŢINGRĆĐI Á ENDASTÖĐ?

Skemmtileg pæling hjá þér um umræðu elítunnar um hugsanleg "mistök almennings", í þjóðaratkvæðisgreiðslum...Lýðræði er fyrst og fremst aðferð til að taka ákvarðanir en ekki aðferð til að ná "réttustu"ákvörðuninni. Elítan heldur ákaft fram hugmyndinni um hina "réttu ákvörðun" ... Hin "rétta ákvörðun" er því ákvörðun sem viðheldur óbreyttu ástandi. Þetta má kalla Platónisma, elítisma eða fasisma. Eða ...
Hreinn K

24. Apríl 2011

EĐLILEGT ENDURGJALD?

Ég vil taka til varna fyrir kjósendur Ásmundar Einars á Vesturlandi sem ekki eru flokksbundnir í VG. Hvernig getur þá staðið á því að fámennisklíka í stjórnmálaflokki geti heimtað að skipta út þingmönnum þegar þeim sýnist? Er það eðlilegt endurgjald fyrir að ...
Þór

24. Apríl 2011

GLEĐILEGA PÁSKAHÁTÍĐ

Paskaliljur...Með öðrum orðum horfið verði frá hinu sameiginlega þjóðarfríi og innleidd þess háttar vaktaskipti að aldrei hægist á neinni starfsemi. Í þá átt hefur tilhneigingin verið á undanförnum árum. Þannig var föstudagurinn langi nánast friðhelgur dagur. Mér þótti það vera spor aftur á bak þegar sú friðhelgi var rofin með lagasetningu fyrir fáeinum árum. Stórfjölskyldan missti þar með hluta af mannskapnum út til þjónustustarfa á þessum degi. En hvað um það. Hvort sem þið eruð...

24. Apríl 2011

PRÓFGRÁĐUR OG PÓLITÍSKIR ROYALISTAR!

Davíð Gðmundsson skrifaði frábært bréf sem birtist her á síðunni, NOKKUR DÆMI... Davíð sýnir fram á hve margir þingmenn vísi í nám sitt án þess að hafa prófgráðu upp á vasann. Ég fór inn á Alþigisvefinn til að ganga úr skugga um þetta. Nánast annar hver maður hefur verið hér og þar í námi, allt vel tíundað, en án prófgráðu. Ég tek hins vegar undir með þér Ögmundur að þetta getur þýtt að viðkomandi hafi hlotið ágæta menntun. Það er mergurinn málsins. Þannig að ég er alls ekki að gera lítið úr þessu fólki eða menntun þess. Annars var ég furðu lostinn yfir viðbrögðunum við skrifum þínum...
Jóhannes Gr. Jónsson

23. Apríl 2011

EGILL OG ECONOMIST: UM LÝĐRĆĐI OG TRAUST

ECON EGILL
...Leiðarahöfundur Economst staðnæmdist við meint afglöp almennings. Og Agli finnst þetta sérstaklega umhugsunarverð skrif... Almennt held ég að fólk gefi lítið fyrir íhaldssöm skrif ritstjóra Economist og Egils Helgasonar einnig, þegar hann er á þessum nótum. Og þegar þingmenn hafa sagt að þeir treysti ekki kjósendum - eða treysti þeim, eftir atvikum - þá hlæja kjósendur.  Þeim er alveg sama hvort fulltrúar á þingi segjast treysta þeim - eður ei. Þeir vita að valdið er þeirra. Spurningin er sú hvort þeir treysti fulltrúum sínum á þingi...

22. Apríl 2011

NÓG TIL AF GUMMÍSKÓM OG RÖRTÖNGUM

...Ákall Valgarðs fyrir grunngildum sem auðga andann en ganga þvert á efnishyggju samtímans, var sannfærandi. Efnishyggju „stórkapítalsimans"  kallaði hann  „hámarksafurðarstefnuna" og tefldi gegn henni húmanisma sem hann nefndi hina „frjóu lífsnautnastefnu". Þar sótti hann hugtök og ínspírasjón í listaskáldið góða,Jónas Hallgrímsson...Margt annað var vel sagt í þessum þætti og margt sem mikilvægt er að hugleiða af mikilli alvöru: Þannig berum við sömu erfðaefni og upplag okkar frá náttúrunnar hendi er nákvæmlega sama og villimanna og grimmdarseggja fortíðar. Villimenn fortíðarinnar, sagði Valgarður, eru nákvæmlega sömu gerðar og við hvað erfðaefnin snertir.  Það sem við helst þurfum á að halda sé að...

22. Apríl 2011

NOKKUR DĆMI ...

...Ég verð að segja að hugmyndir þínar um skólagöngu og staðfestingu um nám eru harla skrýtnar. Til að staðfesta að þú hafir meðtekið námsefnið tekur þú próf eða færð umsogn þar til bærra aðila. Við háskólanám eða nám á háskólastigi skilar þú ritgerð til að staðfesta að þú kunnir/getir nýtt þér námið að því loknu. Á æðri stigum náms verður þú að verja ritgerðina eða fá hana birta í virtum tímaritum (dr. nám).Tiltaka að viðkomandi hafi stundað nám í einhverju segir ekkert annað en að hann hafi verið innritaður í tiltekinn skóla og búið. Það segir nákvæmlega ekkert um hvaða þekkingu viðkomandi hefur aflað sér, það vantar staðfestingu þar á, nefnilega prófið. Leyfðu mér að benda á nokkur dæmi úr ferilskrám alþingismanna ...
Davíð Guðmundsson

21. Apríl 2011

VARĐVEITUM STOLTIĐ

...Mikið er myndin falleg á vefsíðunni þinni, af þessum fallegu glaðlegu unglingum. svo stoltum með íslenska fánan á stöng! Það þarf meira af þessu til að halda stolti okkar við!!!  Og, minna okkur á að við erum Íslendingar!..
Helgi

21. Apríl 2011

INNIHALDIĐ Í LAGI

... Sá sem kom þannig með ferska vinda inn í umræðuna um skipulagsmál hafði aflað sér þekkingar á stað sem ekki var af verri endanunum...Það er dapurlegt hve margir með ágætar  prófgráður upp á vasann koma aldrei neinu á framfæri við sína samtíð - ná aldrei að nýta það sem þeir hafa lært - og kannski lærðu þeir aldrei neitt sérstaklega mikið þrátt fyrir gráðurnar. En á þeim hefur framangreindur fjölmiðill engan áhuga enda ekki um að ræða stjórnmálamenn á pólitískum dauðalista...

21. Apríl 2011

GLEĐILEGT SUMAR!


Sumardagurin fyrsti er í minni dagbók skátamessa í Hallgrímskirkju, boltar handa krökkunum, heitt súkkulaði og tilhlökkun yfir komandi sumri. Þetta síðasta var inntakið í ræðu Layfeyjar Haraldsdóttur, nema og skáta í Ægisbúum, í skátaguðsþjónustunni í dag. Laufey sagði að í sínum huga væri „aðeins einn tilgangur með sumardeginum fyrsta" og hann væri „að vekja tilhlökkun, löngun eftir komandi sumri." Hún sagði...

19. Apríl 2011

RADDIR FORTÍĐAR - FARISEAR NÚTÍĐAR


...Þessir tveir gömlu stjórnmálamenn urðu ekki aðeins sjálfum sér til skammar heldur þeirri tegund stjórnmála sem ekki skilur að valdið er hjá þjóðinni, ekki fulltrúum hennar, hvað þá stjórnmálaflokkum. Ef þjóðin vill taka ákvörðunarvaldið til sín þá hefur hún þann rétt og það er grundvallarréttur. Við slíkri kröfu varð forseti Íslands.
Tuttugasta og fyrsta öldin á eftir að verða öld hins beina lýðræðis. Þá munu kjósendur taka beint í sínar hendur ákvarðanir sem til þessa hafa verið á hendi kjörinna fulltrúa eða stjórnmálaflokka....Með framgöngu sinni urðu þeir fulltrúalýðræðinu til skammar, þótt þess þurfi ekki til, nú þegar vindar alvöru lýðræðis blása um heim allan. Hrikalegt var að heyra tal þeirra um...

19. Apríl 2011

VEGATOLLAR OG ÍSFIRSK BÖRN

Nýjasta hugtak samruna ríkis og kapítalisma kom fram í svari við örstuttu kommenti mínu í gær hér á vefnum. Það heitir "flýtiframkvæmd". Það heitir ekki lengur "einkaframkvæmd" og ekki "komugjöld", heldur "flýtiframkvæmd". Ekki er að spyrja að kapítalismanum. Menn verða að skilja að annað hvort taka menn skatta eða menn "selja inn". Hvort vilja menn kerfi miðalda (og frjálshyggju) að stöðva menn úti á götu til að ...
Hreinn K.

18. Apríl 2011

ENGA VEGATOLLA!

Hin óendanlega þörf mannsins fyrir óþægindi, er nú að koma fram í áformum innanríkisráðuneytisins um "hóflega" vegatolla, sem mun gera vegfarendum leitt í skapi um ókomin ár. Stundum heitir þetta PPI (private participation in infrastructure) og stundum PFI (Private finance initiatives), allt eftir því hvað frjálshyggjan er dugleg við að tæla skattborgarana til fylgilags við sig. Hið rétta er að innviði samfélagsins þarf að skilgreina og þá má aldrei selja í hendur einkaaðilum. Né heldur auðlindir. Orðin "raunsæi" eða "nauðsyn" duga ekki sem röksemd fyrir vinstri menn til að...
Hreinn K.

18. Apríl 2011

UM SNJÓFLÓĐA-VARNIR

Góðan dag Innanríkisráðherra og aðrir sem koma til með að lesa þetta. Í þætti Ara Trausta þann 19. apríl verður viðtalsþáttur við mig um Snjóflóðavarnarkerfi sem ég hannaði. Þetta er mjög athyglisverður þáttur sem ég mæli eindregið með að þið fylgist með.
Eggert Ólafsson, hönnuður

16. Apríl 2011

LISTAMAĐUR UM LISTAMANN


Sá í gærkvöldi annan hluta myndar Erlendar Sveinssonar, Draumurinn um veginn, pílagrímsganga Thors Vilhjálmssonar eftir norðurhluta Pýrenaeaskagans í átt að Santiago de Compostela, vestast  á Norður Spáni. Þeir Erlendur og Thor ríma vel. Thor magnþrunginn heimspekingur, orðjöfur, eins og Erlendur kallaði hann í ávarpsorðum sínum til frumsýningargesta. Erlendur með sögu heimspeki og trúar inngróna...

15. Apríl 2011

EB ÚT AF BORĐINU!

Allmörgum sinnum þessa vetrar hefi ég sent á þig og skorað á, að víkja nú þegar af leið hvað varðar umsóknaraðildina að EB. Hroðalegri handvömm veit ég trauðla ef áfram skal sogast inn í vangaveltur að tarna. Treysti þér til að halda þér og þínum vakandi varðandi áframhald málsins. Þykir ömurlegt uppá að horfa hvernig herforingjaráðið fagnaði endurkomu Guðfríðar Lilju til leiks á vetvangi stjórnmálanna. Skömm mikil og yfirklórið sem á eftir fylgdi ekki til að...
Óskar K Guðmundsson, fisksali

15. Apríl 2011

GREIĐIĐ FYRIR FRAMKVĆMDUM

...Mig langar til að vita hvenær Vg ætlar að greiða fyrir að framkvæmdir geti verið með eðlilegum hætti. Ekki láta prinsipp VG þvælast fyrir í atvinnumálum.
Arnar Ívar Sigurbjörnsson

14. Apríl 2011

KERFI FYRIR KJARKMENN

Svæðisfélag VG á Vestfjörðum vill nú að Ásmundur Einar segi af sér vegna þess að hann gat ekki lýst yfir stuðningi við ríkisstjórnina. Ég heyrði í fréttum að talsmaður félagsins lýsti því að úr því að þingmaðurinn gæti ekki stutt það sem flokkurinn teldi rétt ætti hann að segja af sér þingmennsku og hleypa öðrum að sem treysti sér til þess fylgja flokknum í einu og öllu. Ég vil fá að segja tvennt við þessu....
Árni V.

14. Apríl 2011

ÁSMUNDUR EINAR

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, ákvað í gær að segja sig úr þingflokki VG og hverfa frá stuðningi við ríkisstjórnina. Mér er mikil eftisjá að Ásmundi Einari úr þingflokknum og að sjálfsögðu er ég honum ósammála um afstöðuna til ríkisstjórnarinnar eins og fram kom í mínu máli við umræðu um vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins í gær. Í sjálfu sér þarf engum að koma á óvart ákvörðun Ásmundar Einars því hann hefur um langan tíma verið þungorður í garð ríkisstjórnarinnar og gagnrýnt sinn eigin flokk, VG,  fyrir að bregðast hugsjónum sínum. Þar hefur Ásmundur Einar einkum staðnæmst við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu...

14. Apríl 2011

INNÁVIĐ OG ÚTÁVIĐ

Ég held að sé komin tími til endurskoðunar á þessum flokk okkar eftir þann gjörning að setja Guðfríði Lilju af. Þetta er mjög slæmt út á við og inná við líka. Spurning hvort maður eigi samleið með VG lengur.
Björn

14. Apríl 2011

GÓĐUR TÓNN

...Var feginn að heyra tóninn í þér í umræðu um vantraustið. Það verður að klára kjörtímabilið til ljúka mest áríðandi málunum s.s. rannsóknina o.m.fl. Að fórna stjórninni til að hætta við ESB umsóknina finnst mér ótrúleg afstaða hjá Ásmundi og þar verið að leika sér með eldinn. Vinsamlega reyndu að bera klæði á vopnin! Gangi þér vel. Við þurfum á þér að halda í stjórn.
Víðir Gíslason

12. Apríl 2011

ŢAU SEM SETJA SETJA REGLURNAR...

...Við megum ekki gleyma því að allt tal um að þetta sé sérstakt tilvik eru sömu rök og notuð eru í hvert sinn sem gengið er á rétt kvenna í svona tilvikum. Það hef ég mátt reyna á eigin skinni. Svo tekur steininn úr þegar þeir eru dregnir til ábyrðgar sem benda á ósómann! Nú er það þeir sem eiga að bæta fyrir skaðann! Ef vandinn er sá að Guðfríðu Lilju vanti vegtyllu getir þú leyst það mál með því að gefa henni eftir þitt starf!! Það var ein af talskonum feminista sem sagði þetta, Sóley Tómasdóttir.  Ég vil spyrja fólk sem heldur þessu fram hvort það telji beri vott um ...
Elsa

11. Apríl 2011

ŢINGFLOKKSFORMENNSKAN OG PRINSIPPIN


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir mætti í gær úr fæðingarorlofi og stóð ég og fleiri í þeirri trú að hún tæki að nýju við sem þingflokksformaður einsog hún var þegar hún fór í fæðingarorlofið. En á þennan veg fór það ekki. Efnt var til atkvæðagreiðslu sem fór á þá lund að Árni Þór Sigurðsson var kjörinn gegn fjórum atkvæðum til Guðfríðar Lilju. Þar með hafði hún verið svipt stöðu sinni. Hvers vegna tek ég þessi innanflokksmál upp hér á opnum vettvangi? Ég geri það vegna þess að ég tel þetta ekki vera neitt einkamál - eða þess vegna innanflokksmál...

10. Apríl 2011

GAGNRÝNIN ĆTTI AĐ BEINAST AĐ ŢJÓĐINNI, EKKI FORSETANUM


Niðurstaða liggur fyrir úr þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Sú niðurstaða er afdráttarlaus. Upp úr stendur tvennt.
Í fyrsta lagi er það staðreynd að umræðan um Icesave hefur aldrei verið eins á dýptina og í aðdraganda kosninganna. Þetta þýðir að þjóðaratkvæðagreiðsla er vel til þess fallin að varpa ljósi á flókin mál. Í annan stað er augljóst að þjóðaratkvæðagreiðsla er komin til að vera, slíkur var áhuginn og síðan þátttaka í kosningunni. Ég er ekki í vafa um að beint lýðræði er aðferð 21. aldarinnar. Gagnrýni í garð forseta Íslands vegna ákvörðunar hans...

10. Apríl 2011

NÝIR TÍMAR

Niðurstaðan í Icesave er ekki aðeins höfnun á samningi, heldur einnig höfnun á aðferðafræði. Þeir sem hafa gagnrýnt ofbeldið, samráðsleysið, foringjahrokann og meirihlutagleðina í forystu stjórnarflokkanna, þurfa nú að stíga fram og taka stjórnina. Það er ekki það sama að vera "stjórntækur" í hefðbundinni flokksræðisstjórn, og að veita forystu stjórn sem hefur lýðræði að leiðarljósi. Fulltrúalýðrlæði átti sína gullöld. Henni lauk í gær.
Hreinn K.

9. Apríl 2011

STEINGRÍMS AĐ BERA TIL BAKA

...Vegna andstöðu þinnar og síðan þjóðarinnar gerbreyttist samningasstaðan og það eru allir sammála um að samningurinn sem kosið er um í dag sé margfalt betri en hinn fyrri. Þrátt fyrir það virðist eiga að nota þetta sama mál til að henda þér út úr ríkisstjórn aftur, án nokkurra skýringa. Falli Icesave held ég að ansi margir stjórnmálamenn ættu að hugsa sinn gang aðrir en þú. En vonandi er þetta röng frétt á Eyjunni. Það færi vel á því að Steingrímur stigi fram og bæri þetta til baka...
Kolbeinn H. 

9. Apríl 2011

ŢAR SEM GRENSAN LIGGUR

Sannleikur, skaðinn er skeður.Þú hefur tækifæri til að taka af skarið núna. Hvort segirðu já eða nei í ...
Pétur

9. Apríl 2011

JÚDAS?

Júdas endurborinn. Ögmundur þú samþykktir Icesave-samningana á Alþingi en lætur nú félaga þína koma því til skila að þú ætlir að segja nei við þeim í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þar með gerir þú sjálfan þig að ómerkilegum stjórnmálamanni sem ekki er hægt að treysta. Situr á ...
Pétur

9. Apríl 2011

VIĐ STEINGRÍMUR

...Staðreyndin er sú að við Steingrímur J. Sigfússon höfum verið nánir félagar svo lengi sem ég man eftir mér í pólitíkinni. Og fyrir kynni okkar þar var okkur vel til vina á fréttastofu Sjónvarps, í þann mund sem Steingrímur var að hefja innreið sína í pólitíkina og ég í verkalýðspólitíkina. Þetta var upp úr 1980. Á langri vegferð höfum við að sönnu orðið ósammála um einstök mál - mjög heiftarlega um Icesave  - því er ekkert að leyna. En miklu oftar höfum við verið fullkomlega samstiga og eru góðar minningar af góðu samstarfi miklu  fleiri en þær sem eru miður góðar. En í þessu máli var félaga mínum lítið gefið um mína framgöngu sumarið og haustið 2009 og framá árið 2010 og mér ekki sérlega skemmt yfir framgöngu ríkisstjórnarinnar. Síðan tók málið breytingum sem kunnugt er og aftur náðum við saman...

8. Apríl 2011

FJÖLMIĐLARNIR HAFA STAĐIĐ SIG VEL - FLESTIR


Í aðdraganda Icesave kosninganna hafa fjölmiðlar kappkostað að draga fram rök með og móti Icesavesamningnum. Að mínu mati hafa þeir staðið sig aðdáunarlega vel. Ríkísútvarpið hefur efnt til vandaðrar sjónvarpsþáttaraðar um málefnið og þannig risið undir skyldu sinni sem fjölmiðill í almannaeign.
Margir höfðu af því áhyggjur þegar ég lýsti því yfir fyrir hönd Innanríkisráðuneytisins að ráðuneytið sem framkvæmdaaðili kosninganna, myndi ekki standa fyrir kynningu annarri en þeirri sem lagabókstafurinn kvæði á um. Töldu margir að þar með yrði kynningu áfátt. Af því hafði ég aldrei áhyggjur því ég treysti á fjölmiðlana og umræðu, skipulagða og óskipulagða. Lögfræðingar færðu síðan fyrir því rök að ...

7. Apríl 2011

UM FANGELSI OG SAMGÖNGUR

...Ég vissi alltaf að þú færir aldrei út af prinsippinu að mannlegi þátturinn væri djúpt grafinn í sálu þvína en því miður er ekki svo með alla samráðherra þína. Nýjasta útspil Jóhönnu að halda gangandi söfnum fyrir Vestan og eitthvað meira í ofanflóðasjóð á sama tíma og nánast ófært er um suðurhluta Vestfjarða í vegamálum? Ég bara treysti því að þú skoðir þetta vel af þinni alkunnu festu og réttlæti en hraðbrautir út frá Reykjavík og austur geta beðið en vandamálið er að halda hraðanum innan marka á þessari leið. Nýtt fangelsi á Hólmsheiði fyrir milljarða á meðan...
Þór Gunnlaugsson

6. Apríl 2011

ŢYRFTUM ÖLL AĐ VERA FRÁ TRÉKYLLISVÍK


Það var hressandi að koma til Ísafjarðar á ríkisstjórnarfund en lengi höfðum við  haft á prjónunum að halda fund á Vestfjörðum. Í tengslum við ríkisstjórnarfundinn var efnt til funda þar sem okkur var kynnt starfsemi í atvinnu-, menningar- og menntamálum. Þá var haldin sameiginleg ráðstefna ríkisstjórnar og vestfirskra sveitarstjórnarmanna um málefni sem á þessum landshluta brenna. Þar loga svo sannarlega eldarnir í þeim skilnigi að fólki hefur fækkað og þrengst hefur að  sveitarfélögunum í seinni tíð. Margt hefur þarna vegið þungt en þyngst án efa að missa heimildir til fiskveiða til annarra landshluta.

6. Apríl 2011

SAMRÁĐIĐ OG SAGAN

Samráðsskipan(Corporativism) er stjórnmálastefna sem lítur á samfélagið sem lífræna heild sem byggir á heildrænni félagslegri samstöðu þar sem hver hópur hefur ákveðið hlutverk líkt og líffæri í líkama. Hugmyndir af þessu tagi eru algengar í ýmsum trúarbrögðum og koma fyrir í mörgum stjórnmálastefnum sem leggja áherslu á samstöðu fremur en átök og samkeppni. Hún hefur einkum verið gagnrýnd þar sem hún leiðir til mikilla ríkisafskipta af stórfyrirtækjum og stofnunar ríkisrekinna stéttarfélaga eins og ...
Hreinn K.

5. Apríl 2011

AFRÍKUTRÚBOĐIĐ OG ATVINNUREKNDASAMTÖKIN


...Hugrenningatengsl urðu til þess að þetta kom upp í hugann þegar ég heyrði Samtök atvinnurekenda hóta því í dag að þeir myndu halda kauphækkunum frá launafólki ef ríkisstjórnin félli ekki frá áformum um að umbylta kvótakerfinu, ef hún ekki spýtti í við stóriðjuframkvæmdir, lækkaði skatta á fyrirtæki  og viti menn - ef þjóðin felldi Icesave-samninginn!!! Ég vona að  mér hafi misheyrst að verkalýðshreyfingin hafi tekið undir þessar hótanir.
Í mínum huga er þetta ekkert annað en tilræði við lýðræðið - og það sem meira er tilræði við launafólk. Að taka það í gíslingu með þessum hætti er nánast sama ofbeldið og ...

3. Apríl 2011

AFTURGÖNGUR Á KREIKI

Tuttugu ráðherrar, sem allir voru uppi á dekki þegar útrásarnökkvinn sökk með manni og mús, eru komnir á kreik einsog afturgöngur í zombie mynd til að ofsækja okkur, með stórfenglegu dómgreindarleysi sínu. Það er alþekkt hversu erfitt er að drepa afturgöngur, einkum og sér í lagi vegna þess að þær eru þegar dauðar. Áttatíu prósent lækkun lífeyrisgreiðslna vegna greiðslufalls ríkissjóðs, þegar Icesave bagginn skellur á þjóðinni, mun þó sennilega svelta hina "ódauðu" til þagnar.
Hreinn K

3. Apríl 2011

SKIPTA PENINGAR ENGU MÁLI Í HÍ?

Allar sömu greinarnar eru nú aftur skrifaðar til stuðnings Icesave sem áður voru skrifaðar! Þorsteinn Pálsson, Gylfi Zoega, Friðrik Már, Gylfi og Vihjálmur náttúrlega, að ógleymdum prófessor Þórólfi. Ég rakst fyrir tilviljun á grein eftir Þorstein Pálsson frá haustinu 2009. Hvers vegna þegir hann ekki nú? Hafa þessir menn enga sómatilfinningu? Þeir tala nú nákvæmlega eins ...
Jóhannes Gr. Jónsson

3. Apríl 2011

LÖGREGLA EINBEITI SÉR AĐ HANDRUKKURUM EKKI BÚĐARHNUPLI

...ég skora á þig að lesa skýrslur lögreglu varðandi þetta mál og dómara og gera eithvað í þessum málum strax! Og til að létta á blessuðu lögregluni er þá ekki hægt að koma á fót stöðluðu formi í málum búðarhnuplara, því að í hvert skipti sem að hringt er í lögreglu og hún kemur í búðar hnuplsmál að þá er verið að taka 2 menn af götuni í minst 45min sem að er ekki gott!
Ingþór Eyþórsson

3. Apríl 2011

Baldur Andrésson skrifar: VERKTAKA-HJÁLP RÍKISISNS, RÁĐAGERĐ FRÁ 2007

...Til stendur, sem fyrri daginn,að láta tugi milljarða renna til verktakadeildar SA. Nýta á til þess lífeyrissjóðlánsfé,
en ríkið er í bakábyrgð og almenningi ríkissjóði, ætlað að greiða allt féið til baka, beint,með sérafgjöldum eða
með almennum sköttum. Svikakerfi er uppbyggt, svonefnd ,,ríkiseinkaframkvæmd" sem fela á almannaúTgjöld
og almannaábyrgð. Reynt er að láta svo líta út að framkvæmdir séu ,,ókeypis" eða ,,sjálfbærar , sem er gegnsær lygaþvættingur. Oftast er launaliður afar lítill hluti af veltu stórverkatakafyrirtækja, andstætt spuna. T.d. eru bein launaútgjöld nálega 15% af 10.4 milljarða Vaðlaheiðarútgjöldum, sem mest eru gjaldeyrisútgjöld. Þannig verða stórútgjöld ríkis og ábyrgðarburður á milljarðalánum aðeins til að skapa fá ársverk í raun, en arð til eigenda verktakafyrirtækja. Þegar störf fyrir verktaka eru nefnd eru alltaf nefnd margfeldisáhrif hvers  starfs,
kannki 3x , 4x eða 5x., eða hærri stuðull.  Þetta gildir um ,,ríkiseinka-framkvæmdir" en gildir líka þegar rætt er um stóráætlanir varðandi t.d. álver og virkjanir.  Aldrei er margfaldað þegar...

3. Apríl 2011

ALLT SEM SEGJA ŢARF?

Allir þeir sem klúðruðu Íslandi eru nú að raða sér á auglýsingar þar sem hvatt er til að samþykkja Icesave. Segir það ekki allt sem segja þarf?
Jóhannes Gr. Jónsson

3. Apríl 2011

HVATNING

...Ég hvet þig til að leita allra leiða til að unnt verði að veit Priyönku Thaba varanlegt dvalarleyfi á Íslandi...
Torfi H. Tulinius

2. Apríl 2011

BREIĐUM ÚT FAĐMINN!

...það að gifta manneskju gegn vilja hennar mætti einnig flokka undir mansal og það er ekki eitthvað sem okkur finnst líðandi í okkar menningar heimi er það? Hér er ung stúlka, sem gengur vel í námi hér, langar að mennta sig meira hérna, á von á þvi að verða seld mansali verði hún send heim, réttum út faðminn tökum á móti henni segjum já við viljum hjálpa þér, hér hafa í gegnum tíðina íþróttamenn fengið landvistarleyfi og ríkisborgararétt, fyrir það eitt að geta dripplað eða kastað bolta...
Steinar Immanúel Sörensson, 5 barna faðir, öryrki og réttlætissinni

31. Mars 2011

VILHJÁLMUR OG HÚSTÖKUFÓLKIĐ

Ég sé að nokkrir vefmiðlar ... hafa tekið upp pistil þinn frá í gær um árás Vilhjálms Egilssonar á Jóhönnu og ykkur hin í ríkisstjórninni. Það er rétt sem þú segir að engu líkara er en framkvæmdastjóra SA finnist hann hafa verið rekinn út úr húsi sínu og hústökulið tekið sér þar bólfestu einsog þú segir. Síðan vill "þetta fólk " ráða einhverju segir hinn brottflæmdi Vilhjálmur. Hvílík ósvifni! En það hafa ekki allir skilið fáránleikann í ólýðræðislegu ofbeldi SA. Í fréttum Sjónvarps þótti fréttamanni eðlilegt að ...
Jóel A. 

31. Mars 2011

INNANRÍKISRÁĐUNEYTIĐ: RÍKISBORGARARÉTTUR EKKI SÖLUVARA

...Í þinginu hefur verið litið svo á að geþóttaákvarðanir eigi alls ekki að gilda og að ef Alþingi er ósátt við reglurnar eigi að breyta þeim. Nú hafa nokkrir auðmenn sóst eftir íslenskum ríkisborgararétti og lofa umboðsmenn þeirra gulli og grænum skógum öðlist þeir réttinn. Á þetta reyndi síðastliðið haust og var málaleitan þessara aðila hafnað í Innanríkisráðuneytinu og vísað í þær lagareglur sem í gildi eru. Þessi afstaða var ítrekuð í dag. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að ríkisfang eigi ekki undir neinum kringumstæðum að vera söluvara og að ....

31. Mars 2011

LAUNAFÓLKI HÓTAĐ

það er rétt sem þú segir í pistli þínum um hótanir framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann hefur í hótunum, ekki bara við ríkisstjórnina. Hann hefur fyrst og fremst í hótunum við launafólk! Ef ríkisstjórnin fer ekki að mínum vilja, segir hann, fáið þið engar kjarabætur. Er þetta hægt? Hvers vegna spyrja fjölmiðlar ASÍ og SA ekki út í lýðræðislegan rétt þeirra? Í mínum huga er engin innistæða fyrir þessu valdi sem þeir Vilhjálmur og Gylfi taka sér.
Sunna Sara

30. Mars 2011

„ŢETTA FÓLK"


Það er engu líkara en „þetta fólk" ætli að skipta um sjávarútvegskerfi á Íslandi!
Hvaða fólk skyldi framkvæmdastjóri SA hafa verið að tala um í fréttum Sjónvarps í kvöld? Hann var að tala um Alþingi og ríkisstjórn Íslands. Sem framkvæmdastjóri Verslunarráðsins til langs tíma og síðan sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur Vilhjálmur Egilsson verið einn valdamesti maður í landinu um langt skeið. Það var hann á meðan flokksfélagar hans í Sjálfstæðisflokknum réðu á Alþingi og í Stjórnarráði Íslands. Á þeim tíma voru stjórnvöld samtökum atvinnurekenda þóknanaleg enda þeim leiðitöm. Nú talar Vihjálmur Egilsson sem maður hrakinn úr vistarverum sínum. Hann ávarpar hústökufólkið í Stjórnarráðinu: Hvað vill „þetta fólk" upp á...

30. Mars 2011

REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR BLÍVUR

Reyk airport...En þessi utandagskrárumræða var frábrugðin fyrri umræðum að því leyti að sífellt fleiri virðast vera að sannfærast um að hyggilegt sé að halda flugvellinum í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Gömlu hrunhugmyndirnar um að malbika Skerjafjörðin og flytja flugvöllinn þangað út eða flytja hann á Hólmsheiðina eiga ekki lengur hljómgrunn. Annað hvort hljóti það að vera Reykjavík eða Keflavík. Fyrir Reykvíkinga er það mikið hagsmunamál að halda í flugvöllinn og þá ekki síður það landsbyggðarfólk sem oft leggur leið sína til borgarinnar til að erinda í stjórnsýslunni eða í tengslum við atvinnurekstur. Fasteignaspekúlantar eru ekki eins ágengir nú og á bólutímanum að komast í ...

28. Mars 2011

NORĐFJARĐARGÖNG: EKKI HVORT, HELDUR HVENĆR

Norfj 2...Allt þetta mælir með göngum. Þannig að þau koma. Spurningin er bara hvenær. Þar eru engu hægt að lofa enn sem komið er vegna fjárþurrðar ríkissjóðs. Þessu gerði ég grein fyrir á fundinum...Um mikilvægi jarðganga á þessum stað þarf ekki að sannfæra mig frekar. Þar er ég samherji Norðfirðinga. En það er líka ástæðan fyrir því að ég læt ekki hafa mig út í gylliboð og ósannindi um eitthvað sem ég veit að gengur ekki upp að óbreyttu. Með slíkum málflutningi er engum greiði gerður. Þvert á móti. Enda er ég sannfærður um að ...

27. Mars 2011

TAKK FYRIR AĐ GEFAST EKKI UPP!

Var að lesa óbótaskammir í þinn garð frá lesanda síðunnar, Friðjóni Steinarssyni sem er með vægast sagt undarlegar hugmyndir um vinstrimennsku. Þér er fundið til foráttu að standa fyrir átaki gegn skipulagðri glæpastarfsemi, átaki gegn ofbeldismönnum sem stunda mansal og líkamsmeiðingar. Hvers konar rugl er þetta! Ég leyfi mér að þakka þér og öðrum alvöru vinstrimönnum í VG að hlaupa ekki frá borði og halda róttækum ...
Jóhannes Gr. Jónsson

27. Mars 2011

GEGN EITRI

Tollararnir okkar í flugstöðinni eru hetjur í mínum augum fyrir að reyna sitt besta í niðurskurði að vernda börnin okkar fyrir eiturbyrlurum. E töflur og LSD er ekkert annað en rottueitur vegna afleiðinganna við neysluna og ættu því í raun að vera sett á slíkan lista hér og lögsækja sem tilraunir til manndráps og við getum bara ekki horft fram hjá þessu með einhverjum silkihönskum. Þetta andskotans eitur herjar á inngöngu í landið sem aldrei fyrr og eiga strákarnir okkar í Keflavík og Reykjavík mikinn heiður skilið fyrir ...
Þór Gunnlaugsson

27. Mars 2011

SVIKARAR OG AULAR!

...Þið viljið bara halda í völdin, látið t.d. mynda ykkur, eins og þú, með brosandi flokksdindlaráðnum lögreglu og tollstjórum Sjáfstæðisflokksins. Allt embættiskerfið er rotið, til dæmis einungis einn hæstaréttarlögmaður, sem ekki er flokksdindill úr spilltu íhaldi. Þið látið það viðgangast og takið með því þátt í, að viðhalda óréttlætinu. sem ég flúði. Mér sárnar það ofboðslega , að horfa á, hvernig þróunin er, á vinstri hlið íslenskra stjórnmála. Það hjálpar reyndar að horfa á þetta úr fjarlægð, þó ekki sársaukalaust. Persónulega, hef ég t.d ekki áhuga á að koma til landsins...
Friðjón Steinarsson

25. Mars 2011

Baldur Andrésson skrifar: FABÚLA UM GÖTUN FJALLA OG HEIĐA NORĐANLANDS

...Trúboð er nú stundað að álfurstar muni ríkja við Húsavík og að  fjarlægt heiðargat verði að þeirra höfði sniðið. Slíkum sögum trúir ekkert barn. Búendur í Þingeyjarsýslu taka enn í nefið, þar er róið til hrognkelsa. Ennþá hafa konur ekki fregnað af Tröllaskagasystrum sínum. Þær óttast Rasjón en hlæja að draumagati hans.
Gullið sem greitt er og greiða á til götunar við Eyjaförð er metið á 25 milljarða. Enginn verk-taki fór þar svangur frá borði, né mun þaðan fara. Þetta er alveg milljón á mann segja börn á svæðinu  öllu. 10 milljónir á mann segja þau á Siglufirði. Margt er skrítið í töllahausum, segja þau.  Akademíið metur götin sem dýra afleiðu póstmóderníska, karllæga, strúktúralismans á Íslandi.  Margra áratuga ...

25. Mars 2011

REGLUSTRIKU-FASISMI

Sótt er að Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráherra, vegna mannaráðninga. Ekki er þar allt sanngjarnt....Jafnræðisregla svokölluð er bara reglustrikuaaðferð til að hygla háskólafólki með lengstan prófgróðulsita.  Hitt sem ég vil nefna er svo kvennafasiminn. Til að útrýma misrétti gegn konum, karlafasisma, er búinn til nýr fasismi...
Grímur

24. Mars 2011

ATKVĆĐASKÝRING Í FULLRI LENGD


... Það breytir því þó að sjálfsögðu ekki að þeim einstaklingum sem kjörnir voru á stjórnlagaþingið og nú í stjórnlagaráð færi ég mínar bestu velfarnaðaróskir. Það er mjög leitt hvernig þessi mál hafa æxlast og bitnað á þessu ágæta fólki algerlega að ósekju. Ég gerði grein fyrir afstöðu minni við atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag og kom atkvæðaskýring mín víða fram í fjölmiðlum í kjölfarið ekki að fullu heldur hálfu. Ekkert óeðlilegt við það í knöppum fréttatímum. En fyrir bragðið vantaði upp á samhengið. Ég sagði nefnilega ekki aðeins að...

24. Mars 2011

STYĐJUM ATLA TIL ŢINGSETU

Þetta hefur RÚV, visir.is,smugan.is, eyjan.is og fleiri miðlar ekki talið sér fært að birta. Líklega vegna þess að það hentar ekki. Ég treysti því að þú birtir þetta, Ögmundur! Við undirrituð kjósendur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi lýsum yfir fullum stuðningi við störf Atla Gíslasonar á Alþingi, framgöngu hans og trúmennsku við þær hugsjónir sem hann var kosinn til að framfylgja. Við skorum á hann að víkja hvergi af réttri braut og halda áfram þingmennsku.....
Guðmundur Brynjólfsson

24. Mars 2011

GETUR KONA EKKI BROTIĐ JAFNRÉTTIS-LÖG?!

Sæll aftur Ögmundur, Ég vil fyrst taka fram að ég er ekki einn af þessum körlum sem er pirrast á konum og jafnréttislögum. Þvert á móti ég er nánast femínisti eins og Atli. Eftir fjölmiðlaumfjöllun gærdagsins (23. mars) sendi ég litla klausu um faglegar ráðningar Jóhönnu en í dag bætir hún um betur og lét hafa eftir sér að engum heilvita manni ætti að detta í hug að konur gætu brotið jafnréttislög ...
Árni V.

24. Mars 2011

SPURNINGAR VAKNA UM GĆĐASTJÓRNUN

Ég horfði á Jóhönnu tjá sig um ráðningu á vegum forsætisráðuneytis í 10 fréttum sjónvarps í kvöld (gærvöldi). Þar sagði hún frá því að hún hefði hreinan skjöld og samvisku og hún vissi ekki til þess að staðið hefði verið jafnfaglega að ráðningu í forsætisráðuneytinu og einmitt í þessu tilviki. Þessi yfirlýsing var gefin þrátt fyrir að ráðningin sem um var rætt gekk gegn jafnréttislögum. Nú treysti ég mati Jóhönnu á þessu máli fyllilega, enda veit ég ekkert um málið utan þess sem ég las í blöðunum í dag (gær). Sjálfsagt hafa ráðningar í ráðuneytinu í hennar tíð ekki verið jafnfaglegar og þessi. En þegar þarna var komið fékk ég svona Dejá-Vu tilfinningu. Hafði ég ekki heyrt þetta allt saman ...
Árni V.

22. Mars 2011

SAMMÁLA ATLA OG LILJU

Ég var að horfa á samtalið við Lilju Mósesdóttur, Atla Gíslason og Árna Þór Sigurðsson í Kastljósi.
Ég vil lýsa yfir við þig kæri vinur, að ég er sammála Lilju og Atla og hefði viljað að fleiri hefðu tekið sömu ákvörðun! Hver veit nema að svo verði áður en langt líður.  Það er algjör skömm af núverandi ríkisstjórn og ekki hægt að líða svik hennar og undirferli lengur í öllum mikilvægustu málum þjóðarinnar, já,,,, jafnvel landráð!  Vg er aðeins hjálparflokkur alþjóða kratanna og virðist algjörlega afvegaleiddur.  Það er ...
Helgi

22. Mars 2011

"KVERÓLANTAR KVEĐJA"

Það er einfaldlega þannig að meðal vinstri manna eru margir kverólantar. Þetta fólk virðist ekki hika við að fórna hagsmunum almennings eða umbjóðendum sinna ef það þjónar persónulegum skoðunum þess. Þingmenn VG verða að gera sér grein fyrir því að það er krafa kjósenda þeirra að stjórnin haldi út kjörtímabilið. Þessi ríkisstjórn er að gera marga mjög góða hluti við gífurlega erfiðar aðstæður þar sem fortíðardraugar beita öllum hugsanlegum ráðum til að ná aftur völdum. Steingrímur J Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir...
Pétur

21. Mars 2011

HVER SKYLDI VERA KJÓSENDA-TAKTURINN?

Ertu enn á þeirri skoðun að sú fullyrðingin standist ekki að Lilja Mósesdóttir sé " í litlum takti við aðra í flokknum" nú þegar hún er gengin úr þingflokknum? Hafði ekki bara Fréttablaðið rétt fyrir sér í sinni fréttaskýringu, en þú ekki? Er ykkur vinstri mönnum alveg fyrirmunað að starfa með öðrum og gera málamiðlanir? Þannig vinnubrögð héldu Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn kjörtímabil eftir kjörtímabil....
Anna

21. Mars 2011

ÚRSÖGN ATLA OG LILJU OG TUNGUTAK HRUNSINS


Í dag gengu þau úr þingflokki VG þau Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir. Mér er  óneitanlega eftirsjá að brottför þeirra enda höfum við verið samherjar um margt. Ég óska þeim hins vegar alls góðs í starfi á Alþingi sem óháðir þingmenn utan þingflokka. Enn eru þau Atli og Lilja félagar í VG og staðhæfa þau í yfirlýsingu sem þau sendu frá sér í dag að þau hefðu ekki orðið viðskila við stefnu flokks síns heldur væri það þingflokkurinn sem það ætti við um. Umhugsunarefni urðu mér eina ferðina enn ummæli háskólaprófessors og fréttamanns í fréttum dagsins. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, sagði að ...

20. Mars 2011

ĆVINLEGA ŢAKKLÁT(?)

Bretar beittu ekki Íslendinga hryðjuverkalögum heldur Kauþingi. Einkabanka, sem rekinn var á glæpsamlegan hátt ef merka má fjölmiðla. Íslengdingar ættu að vera Bretum og þá sérstaklega þeim Mr. Darling og Mr. Brown ævinlega þakklátir fyrir að taka bankann niður. Verst var að þeir gerðu það ekki fyrr því þá hefði skaðnn fyrir landið orðið minni.
Pétur

20. Mars 2011

„VIĐ VORUM RĆND"


...Svona má ráðherra dómsmála ekki tala, sagði Gestur Jónsson við þessu. Önnur eins ummæli hefðu lent fyrir mannréttindadómstól og gætu eyðilagt og ógilt málarekstur! Ég auglýsi eftir þeim málum sem hér er vísað til og vil ég gjarnan í framhaldinu ræða málefnið frekar. Mín yfirlýsing var almenns eðlis en ekki tilvísun í einstök mál. Á þessu er grundvallarmunur sem ég hefði haldið að minn gamli vinur og samstarfsmaður til áratuga, lögspekingurinn og hæstaréttarlögmaðurinn, Gestur Jónsson, áttaði sig á. Eða getur verið að vilji standi til að færa okkur í áttina að réttarkefi sem byggir ekki á því að finna út hvað rétt er, heldur hvort ...

18. Mars 2011

UM RÉTTARKERFI OG LÝĐRĆĐI


Í dag efndu embætti Ríkissaksóknara og Ákærendafélagið til ráðstefnu um dómstóla og ákæruvald. Sem innanríkisráðherra flutti ég inngangserindi á ráðstefnunni þar sem ég á meðal annars fjallaði um þrískiptingu valdsins, dómsvaldsins og hins tvískipta lýðræðisvalds, framkvæmdavalds og löggjafarvalds. Taldi ég á skorta í þjóðfélagsumræðunni að réttarkerfið og þeir sem þar störfuðu hefðu á því skilning að lýðrðislegum viljia ætti að sýna viðringu ekki síður en dómsvaldinu....

18. Mars 2011

EFLUM ALMENNINGS-SAMGÖNGUR

Ég vildi gjarnan forvitnast um hvort innanríkisráðuneytið hafi uppi einhver bein áform um að efla almenningssamgöngur. Í samgönguáætlun er þetta nefnt sem markmið, en öll umræða um samgöngumál virðist eigi að síður snúast um nýjar hraðbrautir handa einkabílum. Er ekki hægt að beita sér fyrir að ríki og sveitarfélög taki höndum saman um að auka þjónustu Strætó bs. og fleiri slíkra félaga? Núna eru vinstrimenn í stjórn og óvíst að ...
Sverrir

11. Mars 2011

LEPPAR AUĐVALDSINS

...Nú skrifar þú pistil um orðræðu Darling á RÚV ohf. og í sjálfu sér ágætlega orðaðan pistil ... ekki vantar það. Svo vel finnst mér þú reyndar orða hlutina að mig langar til að taka mér það bessaleyfi að vitna beint, sem væri ég að míga á dýrðina á vakninga-samkundu hjá Vilhjálmi Þorsteinssyni, viðskipta-makker Björgólfs Thor, lepps Deutsche Bank og kannski Goldman Sachs líka: "Icesavedeilan minnir á að þegar valið stendur á milli eignarréttinda og mannréttinda velkist alþjóðaauðvaldið ekki í vafa um hvernig á að forgangsraða." Velkist þú nokkuð í vafa Ögmundur, sem ráðherra mannréttindamála? Þér til upplýsingar er ég talsmaður þess að Wall Street og City ættu fyrir löngu að vera ...
Jón Jón Jónsson

11. Mars 2011

GJÖFULL SAMFERĐARMAĐUR KVADDUR


...Í dag fór útför Thors fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík og var yfir henni reisn og frumleiki - mjög í anda skáldsins. Það var mín tilfinning; allt frá því Steindór Andersen kvæðamaður hóf upp raust sína og kvað  hetjuljóð Þóris Jökuls  frá 13. öld í upphafi athafnarinnar. Ljóðið er sterkt og í flutningi Steindórs í Dómkirkjunni, við útför Thors Vilhjálmssonar í ofanálag,  hreinlega magnað!  ...Sigurður Pálsson, skáld, gerði þessa stund ógleymanlega - ef ekki ódauðlega -  því svo sterk var hugvekja hans um Thor Vilhjálmsson:  Magnað listaverk...

11. Mars 2011

ICESAVE OG GENGIĐ

Einstefnu áróður RUV í fréttaflutningi í gærkveldi fyrst í Kastljósi með tölvupósta sem fengnir hafa verið á bak við tjöldin og síðan viðtalið við Alistair Darling fyrrum fjármálaráðherra Breta eiginlega eyðilagði kvöldið fyrir mér en ef fullrar sanngirni hefði verið mætt hefði fréttastofan átt að upplýsa þjóðina um að vegna gengissigs hefði Icesafe skuldin hækkað um ...
Þór Gunnlaugsson

10. Mars 2011

EF AĐEINS ÍSLENDINGAR HEFĐU...


Alistair Darling, fyrrverandi fjármálaráðherra Breta, kvartar í sjónvarpsviðtali sáran yfir framgöngu íslenskra stjórnvalda haustið 2008. Svo var að skilja að allt hefði farið vel ef aðeins Íslendingar hefðu verið ögn meðvitaðri um vanda bankakerfsins og heiðarlegri gagnvart Bretum - nema hvort tveggja væri. Þá hefðu Bretar sýnt Íslendingum fullan skilning!  Í ljósi þessa er skrýtið að þegar síðan á reyndi - Bretar höfðu beitt okkur hryðjuverkalögum og öðrum þvingunum - skyldu þeir ekki sýna Íslendingum minnsta vott af skilningi heldur reisa kröfur um að sjálfir högnuðust þeir á Icesave- vandræðum Íslendinga með...

9. Mars 2011

VIĐ FYLGJUMST MEĐ YKKUR!

Nú fylgjast margir með ykkur stjórnarliðum, hvort aðeins sé um innantóm orð að ræða þegar að þið gagnrýnið ofurlaun bankastjóra. Menn hafa enga trú á því að þið getið ekki brugðist við með einhverjum hætti. Ég og fleiri bíðum eftir að sjá raunverulegar aðgerðir en ekki jarm og vandlætingu í fjölmiðlum eða á Facebook síðum. Þá þarf að fara yfir þessi mál með fulltrúum Bankasýslunnar. Þeirra afstaða er yfirvöldum til háðungar...
Kristján G.

8. Mars 2011

EIGI BARA VIĐ GLĆPAKLÍKUR...

Mér finnst þú vera brjóta gegn öllu sem þú stendur fyrir með að auka heimilidir hjá þessu spillta lögregluvaldi. Ég veit ekki betur en æ fleiri séu að kæra lögregluna, hún sé sífellt að verða spilltari. Að breyta þessu landi í meira lögregluríki getur haft hræðilegar afleiðingar fyrir landann. Ég er samt sammála því að sporna við glæpaklíkum, en til að gera það þarf einfaldlega að smíða lög sem snúa sérstaklega að þessum klíkum sem fjallað er um, en ekki yfir höfuð almenning, sem væru mikil mistök. Þá yrðu þessi lög einungis ....mér finnst þú hafa staðið þig eins og hetja en ég missi allt álit á þér ef þú ferð bak orða þinna...
Úlfar

8. Mars 2011

FJÖLMIĐLAR Í KASTLJÓSI


...Í pistli hér á síðunni ræddi ég um hlut fjölmiðla og tilhneigingu hjá þeim sumum að hefja ofbeldismenn upp til skýjanna með því að taka í dekurviðtöl menn sem hafa fé af fólki með því að beita það kúgun og limlestingum. Nefndi ég enga fjölmilða á nafn í því sambandi. Ég leyfði mér hins vegar að minnast á fréttapistil á Pressunni ...Ýmsir fjölmiðlar hafa tekið málið upp bæði hvað varðar rannsóknarheimildir lögreglu og þau dæmi sem ég tiltók. Sumir hafa reynt að kynna sér málin, öðrum dugar að dæma fyrirfram. Ég hef fengið mikil og kröftug og afar jákvæð viðbrögð og varð mér hugsað til þess þegar ég las framlag lesenda Eyjunnar hve mjög lesendahópur hennar virðist - með undantekningum þó - frábrugðinn þeim hópi sem ég heyri frá...Ég er einfaldlega að vekja til umræðu á meðal fjölmiðlafólks um ábyrgð fjölmiðla þegar ofbeldi er annars vegar...

8. Mars 2011

MEĐ FRESLI - GEGN OFBELDI

Birtist í DV 07.03.11.
DV...Breytingin er sú að færa má hópa sem vitað er að stunda alvarlegt glæpsamlegt atferli undir eftirlit. Þar erum við að tala um glæpi á borð við eiturlyfjasölu, mansal, peningaþvætti, fjárkúgun - og síðan líkamsmeiðingar og annað ofbeldi sem haft er í frammi til að ná sínu fram...Í samfélagi okkar er fjöldi fólks sem ekki getur um frjálst höfuð strokið vegna yfirgangs ofbeldismanna. Það er skylda okkar að rísa upp til varnar frelsi þessa fólks. Út á það gengur okkar starf....Það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að ég sé ekki meðvitaður um hve vandasamt verkið er og þá ekki síst hvað varðar allt það sem snýr að lagarammanum. Sá rammi þarf að vera traustur og þess eðlis að hann þoli mismunandi einstaklinga við stjórnvölinn á öllum stigum...

8. Mars 2011

HVAĐA SKORĐUR VERĐA REISTAR?

Ljóst er að lögregla í flestum ríkjum, þar sem hún hefur heimildir til að fylgjast með borgurunum án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um glæpi, hefur misnotað þessar heimildir. Yfirleitt verður fyrir barðinu á slíkri misnotkun fólk sem gagnrýnir stjórnvöld. Þú talar nú eins og þær heimildir sem þú beitir þér fyrir að verði lögleiddar séu af öðrum toga. Því spyr ég: Hvaða skorður eru reistar við því að lögreglan misnoti þessar heimildir í þeim tillögum sem þú hyggst beita þér fyrir?...
Einar

7. Mars 2011

GAMLA GÓĐA LEIĐIN

Bara stutt og laggott, 90% tekjuskatt á laun yfir 1 mill. Gamla sænska aðferðin...... Takk fyrir mig.
Þórður B

7. Mars 2011

ÁBYRGĐ FJÖLMIĐLA


...Ef slík viðtöl eru ekki mjög gagnrýnin og með skýrum fyrirvörum þá er verið að gefa mönnum sem af ásetningi stunda glæpsamlega starfsemi, tækifæri til að villa á sér heimildir. Þetta er ekki góð fréttamennska; á meira að segja ekkert skylt við hana. Þetta er blekkingarleikur og með þessu móti gerast menn samsekir um að falsa veruleikann. Nákvæmlega þetta ástunda samtök á borð við Hells Angels; skapa falsímynd af sjálfum sér útávið á meðan ofbeldi er stundað í felum. Þegar fjölmiðlar birta fegrunarviðtöl við ofbeldismenn finnst mér ástæða til að staldra við. Ekkert síður en þegar birtar eru fréttir sem varla verða túlkaðar öðru vísi en sem beinar ofbeldishótanir. Ekki veit ég til dæmis hvað vakti fyrir Pressunni að birta eftirfarandi...

6. Mars 2011

SKÝR SKILABOĐ GEGN OFBELDI

Birtist í Morgunblaðinu 05.03.11.
MBL -- HAUSINN...Í utandagskrárumræðum á Alþingi í vikunni, þar sem Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks var málshefjandi og undirritaður sat fyrir svörum, kom fram skýr þverpólitísk samstaða um baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Vísa ég þar einnig í þingmál sem Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, flutti ásamt fjölda þingmanna, þótt mismunandi sjónarmið séu uppi um útfærslu aukinna rannsóknaheimilda. Þessi samstaða er mjög mikilvæg og tel ég að hún sé ekki aðeins bundin við Alþingi heldur eigi við um þorra þjóðfélagsins. Við neitum að samþykkja glæpi og ofbeldi og að slíkt geti orðið að „iðnaði". Vandamál þetta er þó miklu stærra en svo að ...

6. Mars 2011

ÁTAK GEGN OFBELDI

Birtist í Fréttablaðinu 05.03.11.
Fréttabladid haus...Gagnrýni mín á forvirkar rannsóknir svokallaðar,  byggðu á því grundvallaratriði að þar með væri gefið grænt ljós á leyniþjónustustarfsemi án aðhalds og eftirlits réttarkefinsins....Nú er það viðfangsefnið að skapa þann ramma sem við öll getum sætt okkur við og er í samræmi við grundvallarasjónarmið um hvernig við viljum að opið lýðsræðissamfélag þróist á Íslandi. En forsendan er að sjálfsögðu sú að hér geti fólk um frjálst höfðu strokið óáreitt af ofbeldismönnum...

6. Mars 2011

RÁĐAST ŢARF AĐ RÓTUM VANDANS

Loksins höfum við fengið okkar stríð. Bandaríkin hafa stríð gegn eiturlyfjum, stríð gegn hryðjuverkamönnum. Öll þessi stríð eru misnotuð til að minnka mannréttindi borgaranna. Forvirkar rannsóknarheimildir þær verða nú eitthvað til að byggja á. Síðan verður laumað inn nýjum heimildum á þennann sökkul sem kominn er.Við Íslendingar sem heild erum búin að finna fyrir því hvernig svona lög eru misnotuð. Embættismannaklíkan á Íslandi, býr við langa hefð misnotkunar á aðstöðu sinni. Er ekki nær að ráðast að rótum vandans, hvaðan eru þessir menn að fá tekjur sínar...
Viðar Sigurðsson 

4. Mars 2011

LIGGUR Á VEGNA ESB?

...Það er okkur sumum svo mikilvægt að geta treyst því að þeir sem valdið hafa í umboði okkar kjósenda skulu ekki ganga gegn úrskurði hæstaréttar í svo stóru máli sem breyting á stjórnarskrá okkar er. Að ætla að fara bakdyramegin að þessu stóra máli er forkastanlegt. Flýtirinn, asinn og æðibunugangurinn hjá Samfylkingu er að sjálfsögðu þráin að breyta stjórnarskránni vegna ESB aðlögunar, en óbreytt stjórnarskrá bannar ...
Helga.

4. Mars 2011

VIRĐUM GRUNDVALLARREGLUR

Birtist í Fréttablaðinu 03.03.11.
Fréttabladid haus...Á Íslandi er efnahagskreppa og þegar til lengri tíma er litið höfum við einnig búið við pólitíska kreppu sem birtist í vantrú á stjórnmálum. Til eru þeir sem telja að jaðri við stjórnarskrárkeppu og vísa ég þar í harða gagnrýni á ákvarðanir sem forseti Íslands hefur tekið í krafti stjórnarskrárákvæða um þjóðaratkvæði. Ég er ekki í hópi þeirra sem gagnrýna ákvarðanir forsetans hvað þetta snertir, enda eindreginn fylgismaður þjóðaratkvæðagreiðslu og vil hafa sem flesta öryggisventla til að ...

4. Mars 2011

VILL AĐ SÓLIN SKÍNI Á OFBELDIĐ

Hræsnari! Þú veist vel að raunverulegu alþjóðlegu glæpasamtökin á Íslandi heita ekki Hells Angels heldur Alcoa, Rio Tinto og Century Aluminium....
Sólskin

3. Mars 2011

LOKSINS JÁKVĆĐAR FRÉTTIR!

Einhvers staðar á vefmiðli sá ég því haldið fram af vítisengli að samtök hans, Hells Angels, hefðu aldrei verið fundin sek sem klúbbur! Þess vegna væru staðhæfingar um að félagsskapurinn væri glæpsamlegur út í hött. Svo var að skilja að þetta væru svona bí bí og blaka klúbbur. Þetta eru hins vegar heldur hráslagalegar yfirlýsingar þegar grannt er skoðað. Alkunna er að ...
Jóel A.

3. Mars 2011

SKÝR SKILABOĐ TIL OFBELDISMANNA!


Á fréttamannafundi sem Innanríkisráðuneytið boðaði til í dag ásamt ríkislögreglustjóra, lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjóra Suðurnesja og tollstjóranum í Reykjavík kom fram skýr ásetningur um að nú skyldi forgangsraðað í  baráttu gegn ofbeldishópum. Samkvæmt óyggjandi upplýsingum lögreglunnar eru hópar ofbeldismanna að festa sig í sessi á Íslandi; þeir séu að rotta sig saman hver gegn örðum því allir vilja þeir sitja einir að illa fengnum auð sínum: Afrakstri af eiturlyfjasölu, mansali og fjárkúgun. Á fréttamannafundinum í dag kom fram...

3. Mars 2011

ENDURNÝJAĐ TRAUST Í LANDSKJÖRSTJÓRN

Birtist í Fréttablaðinu 02.03.11.
Fréttabladid hausÁstráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður, hefur verið gagnrýndur fyrir að taka endurkjöri í Landskjörstjórn. Það gerði hann fyrir eindregna hvatningu margra þingmanna, þar á meðal mína og engin athugasemd var gerð við það á þingi þegar endurkjörið fór fram í byrjun vikunnar. Ég hafði á hinn bóginn gert opinberlega við það athugasemd í fjölmiðlum þegar Landskjörstjórn sagði af sér í einu lagi í kjölfar úrskurðar Hæstaréttar um ógildingu kosningarinnar til ...

3. Mars 2011

HELLS ANGELS ÓVELKOMNIR TIL ÍSLANDS

Sýnið erlendum glæpamönnum enga linkind! Þeim á að vísa undanbragðalaust úr landi og meina slíku hyski aðgang að Íslandi. Hells Angels eða samsvarndi ofbeldishópar er lágkúra sem hér á ekki að þrífast.
Jóhannes Gr. Jónsson

3. Mars 2011

ÁFRAM HÁĐ DÓMSÚRSKURĐI!

Ég hjó sérstaklega eftir því að við umræðuna á Alþingi um glæpastarfsemi lagðir þú áherslu á að rýmkaðar heimildir til rannsókna á glæpahópum yrðu áfram háðar dómsúrskurðum. Þetta er lykilatriði, ekkert síður en hitt að losna við ofbeldishópa sem nú reyna að breyta íslensku þjóðfélagi í Mafíuland. Það má aldrei takast og styð ég þig eindregið í þessari viðleitni.
Sunna Sara

2. Mars 2011

BURT MEĐ GLĆPAHÓPA!


Í dag fór fram mjög góð umræða á Alþingi um leiðir til að sporna gegn glæpahópum sem nú reyna að brjóta sér leið inn í íslenskt samfélag. Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, hóf umræðuna og fullltrúar allra flokka tóku þátt, þar á meðal utanríkisráherra, Össur Skarphéðinsson og Siv Friðleifsdóttir þingkona, sem hefur verið kröftug í umræðu um þetta málefni og nýlega sett fram þingmál um auknar rannsóknarheimildir lögreglu. Undir þau sjónarmið tók ég við umræðuna en lagði áherslu á að jafnframt því sem rannsóknarheimildir lögreglu yrðu víkkaðar þannig að þær næðu til hópa en ekki einvörðungu einstaklinga, yrði eftir sem áður byggt á dómsúrskurðum... Tilefni umræðunnar í dag eru varnaðarorð lögreglu og fréttir um að glæpahópurinn Hells Angles á Íslandi sé að fá inngöngu í alþjóðasamtökin. Fulltrúum þessara samtaka hefur margoft verið meinað að koma inn í landið og ....

1. Mars 2011

Baldur Andrésson skrifar: RÍKISSKÚFFAN Í EYJAFIRĐI: GREIĐ LEIĐ EHF

....Bólubrellurnar eru liðin tíð! Þær eru ekki lengur brellur, þegar eðli þeirra er upplýst skv. biturri reynslu.  Formgerðin um götun Vaðlaheiðar er móðgun við íslenskan almenning árið 2011. Ef leggja á í götun Vaðlaheiðar er eins gott að upplýst verði strax að bein ríkisútgjöldin verða að öllum líkum á bilinu 6 til 7 milljarðar til þeirra framkvæmdar, þótt tekjur af veggjaldi komi til sögunnar. Þá þarf um leið að útskýra hvers vegna valkostabraut tengd útþennslu Eyjafjarðarsvæðisins er nú brýnasta samgönguframkvæmd á hina fátæka Íslandi....

27. Febrúar 2011

Á ÁFRAM AĐ RĆNA ŢJÓĐINA VÖLDUM?

Ég hlustaði á Silfur Egils í dag þar sem meðal annars var talað um málskotsrétt forsetans og stjórnlagaþing eða stjórnlagaráð einsog samkoman mun heita ef samþykki fæst á Alþingi að hnekkja úrskurði Hæstaréttar. Nýkjörinn fulltrúi á hið ógilta stjórnlagaþing sagði í þættinum að öllum væri „sléttsama" hvernig þau væru kosin ef þau skiluðu góðu verki og bætti við að Hæstiréttur og Alþingi væru vanhæf vegna hagsmuna sinna af óbreyttu ástandi.
Sjálfur velti ég því fyrir mér hvort vanhæfu einstaklingarnir í þessari umræðu væru ekki ... Allir viðmælendur ræddu málskotsréttinn sem sérstakt vandamál tengt forsetanum. En er ekki vandamálið þá lýðræðið og þjóðin? Það sem forsetinn er að gera á nefnilega ekkert skylt við gamalt konungsvald heldur ...
Grímur

26. Febrúar 2011

ORĐ SKULU STANDA


Þegar Hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn sem ógilti kosningar til stjórnlagaþings, þá gagnrýndi ég réttinn harðlega. En ég tók fram að úrskurði hans bæri að hlíta til hins ítrasta. Það þýðir á mannamáli að engar fjallabaksleiðir megi fara til að komast framhjá niðurstöðu Hæstaréttar. Að mínu mati er skipan stjórnlagaráðs með sömu einstaklingum og kosnir voru til stjórnlagaþings tilraun til einmitt þessa. Verði þetta niðurstaða Alþingis þá næst hún fram án míns stuðnings. Í dag ...

24. Febrúar 2011

MISSKILNINGUR UM VOPNAFLUTNINGA LEIĐRÉTTUR


Síðustu daga hefur verið staðhæft í fréttum nokkurra fjölmiðla að Innanríkisráðuneytið hafi blessað hergagnaflutninga á vegum íslenskra flugfélaga til Afganistans. Í kjölfarið hafa friðarsinnar sent frá sér mótmæli gegn þessum meintu flutningum. Hið rétta er að engar slíkar heimildir hafa verið veittar. Aftur á móti er það rétt að á vegum íslenskra flugfélaga eru af og til flutt vopn eða önnur hergögn á milli staða. Á vefmiðlinum smugan.is er ég ...

23. Febrúar 2011

SNYRTILEG EYJA SNYRTIR FRÉTTIR

Vefmiðillinn eyjan.is hefur stundum verið skemmtilegur miðill, sérstaklega kommentakerfið sem var frjálst og óbeislað. Nú á að setja kennitölumúl upp í þátttakendur enda nauðsynlegt að fækka þátttakendum í kerfi þar sem kratarnir fóru í vaxandi mæli halloka. Ekki nóg með múlinn því búið er að ráða Karl Th. Birgisson fyrrum framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar sem ritstjóra. Og viti menn. Nánast á fyrsta degi var byrjað að snyrta fréttirnar í þágu ESB! Ég skal nefna dæmi. Pressan og Eyjan sögðu frá sömu skoðanakönnuninni í dag. Í henni kom fram að á Íslandi eru fleiri ...
Sunna Sara

23. Febrúar 2011

EKKI SKYLDA AĐ FARA Á HAUSINN!

Athyglisverð færsla sem vakin er athygli á í bréfi Björns. Það er semsagt ekki samningsbundin skylda fyrir land að fara á hausinn. Vissulega umhugsunarvert fyrir hagsmunagæslumenn  Íslands...
Hreinn K

22. Febrúar 2011

UMHUGSUNARVERT!

Ég leyfi mér að vekja athygli síðunnar á eftirfarandi bloggi um EES samninginn og efnahagsþrengingarnar og þá sérstaklega Icesave. Ég vil taka allt til málefnalegrar skoðunar eining það sem sagt er í meðfylgjandi örpistli...
Björn

22. Febrúar 2011

ER ŢJÓĐIN TRAUSTSINS VERĐ?


Furðulegar yfirlýsingar berast frá Alþingi um að þingmenn treysti þjóðinni eða treysti henni ekki. Þetta er fullkomlega óinteressant. Í mínum huga kemur þjóðinni ekkert við hvort einstakir þingmenn treysta henni eða ekki. ...Þingmenn mega aldrei gleyma því að þeir eru fyrst og fremst starfsmenn þjóðarinnar - handlangarar en ekki handhafar valds án skilyrða....En þeir sem harðast tala gegn þessari skipan spyrji sjálfa sig: Var það til ills að vísa Icesave til þjóðarinnar í byrjun árs 2010 með hliðsjón af viðhorfum í þjóðfélaginu þá og hvernig málið stórbatnaði í kjölfarið? ... Vandinn á Íslandi í aðdraganda hrunsins var sá að stöðugt var verið að þröngva upp á þjóðina lausnum og niðurstöðum, án umræðu og án þess að þjóðin væri spurð leyfis ... Þá er ýmislegt brýnna en að þrengja að málskotsrétti forseta Íslands...

21. Febrúar 2011

ERU MENN BÚNIR AĐ GLEYMA?

Ég hlustaði á þingmann Samfylkingarinnar á Bylgjunni í morgun ráðast á forsetann og segja að hann hafi verið einn helsti stuðningsmaður útrásarvíkinganna. Forsetinn hafi séð partíinu fyrir húsnæði. Síðan kemur Pétur hér á síðunni hjá þér og kennir forsetanum um allt sem aflaga fór í íslensku samfélagi og vill hann norður og niður. Þau skrif eru óvenjulega ósvífin og heiftug. En er þetta alveg svona einfalt? Kom ekki nánast allt þjóðfélagið að útrásarruglinu, stjórnmálamenn, stjórnkerfið, utanríkisþjónustan meðtalin sem mærði óskapnaðinn? Eru menn nokkuð búnir að gleyma? Þegar þú varst að gagnrýna forsetaembættið Ögmundur  og útrásarvíkingana og útþenslu bankanna þá var það nánast eins og...
Jóhannes Gr. Jónsson

21. Febrúar 2011

ICELAND VS íSLAND

Hefur einhver leitt hugann að því að ef Iceland (verslunarkeðjan) fer á hausinn, þá fer Ísland (ríkið) líka á hausinn?
Hreinn K

21. Febrúar 2011

ÁRÁS Á ALŢINGI

Ef saksóknari vill stefna einhverjum fyrir árás á Alþingi þá hefur hann tækifæri núna. Ekki veit ég hvað þjóðin hefur gert af sér til að verðskulda slíka fígúru fyrir forseta. Eitt er víst að forsetinn er ekki lengur sameiningartákn þjóðarinnar hann er ekki forsetinn minn. Það er alveg víst að nauðsynlegt er að breyta stjórnarskránni. Það ber að leggja forsetaembættið niður og í stað þess gæti komið "Talsmaður Alþingis" sem þingið kysi. Talsmaður þingsins staðfesti lög og sjái um ýmsar móttökur. Þetta yrði svipað fyrirkomulag og í mesta lýðræðisríki heims, Svíþjóð. Það er sorglegt að horfa upp á þau öfl í þjóðfélaginu sem leggja steina í götu ríkisstjórnarinnar við endurreisn landsins og það er í raun svívirða að það þurfi að eyða öllu þessu púðri í svona ...
Pétur

19. Febrúar 2011

RÉTTUR TIL VATNS OFAR EIGNARRÉTTI


...Auðvitað er það fásinna að einstaklingur geti átt - prívat og persónulega - dýrmætar auðlindir á borð við Gvendarbrunnana, eða vatn undan Ingólfsfjalli, Esjunni eða Snæfellsjökli. Slík hugsun er nánast eins fráleit og þrælahald var  á sínum tíma. Ef eignarrétturinn hefði verið algildur og óafturkræfur - eins og sumir tala um eignarrétt á vatni -  þá sætu Bandaríkjamenn uppi með þrælahald. Þræll var jú eign húsbónda síns. En auðvitað hlaut skilningur manna á mannréttindum að ryðja þessum fáránleika úr vegi. Það mun einnig gerast með vatnið. Þess vegna þarf að setja í stjórnarskrá Íslands að...

19. Febrúar 2011

ER ŢÉR TREYSTANDI?

...Nú sækja alvarlega á mig vomur hvort þér sé treystandi til baráttu fyrir opnu og virku lýðræði, eða hvort þú sért bara lítill hluti af þeirri stjórnmálaelítu sem samfylkir nú með fjármálavaldinu gegn alþýðu heimsins, líkt og Hreinn K bendir réttilega á. Ögmundur minn, mér sýnist þú nú hafa tungur tvær og það veldur mér depurð, því ég treysti þér áður til góðra verka og trúði því að tunga þín væri hrein. Þú getur talað um reglustrikað kerfi íslenskrar stjórnsýslu og falið þig endalaust þar á bakvið. En málið snýst samt alltaf um það í lífi sérhvers manns að taka ákvörðun um hvort hann vill vera þúfa eða hluti af stóru hlassi. Í mínum augum hafa ...
Jón Jón Jónsson

19. Febrúar 2011

OFT VELTIR LÍTIL ŢÚFA...

Fréttir berast af því að á Írlandi sé spennan yfir ákvörðun forseta Íslands ekki síður mikil en á Íslandi. Gífurlega hörð pólitísk styrjöld er háð á Írlandi milli almennings annars vegar og bresku bankanna hins vegar. Stjórnmálaelítan hefur tekið stöðu með bönkum. Hingað til.  Ákvörðun forseta Íslands um að vísa ákvörðun um það hvort ánauð fjármálageirans eigi að vera sjálfsagður hlutur eða ekki, mun valda ...
Hreinn K

19. Febrúar 2011

GERĐIST EKKERT?

...Hinu málinu, Icesave, var vísað til þjóðarinnar í ársbyrjun 2010 og var fellt. Það má taka undir að afleiðingar þess voru að ekkert gerðist. En það var einmitt það sem ekki mátti gerast. Ísland hélt áfram að vera í helkulda á erlendum mörkuðum með þeim afleiðingum að ekki hefur hægt að byggja atvinnulífið upp. Það gerðist ekkert á vinnumarkaðnum annað en að atvinnuleysið jókst. Ég fullyrði að þjóðin hafi tapað mun meira á að fella samninginn í ársbyrjun 2010 heldur en þann "ávinning" sem varð af nýjum samningi.
Pétur

16. Febrúar 2011

SKEMMDARVERK GEGN GRASRÓTAR-LÝĐRĆĐI

Ég las um það á einhverju blogginu að einstaklingar sem styðja Icesave segjast hafa farið inn á vefsíðuna www.kjosum.is , þar sem hvatt er til undirskrifta með þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Þeir hafi sett inn plat nöfn á listann. Þetta gera þeir til að undirskriftasöfnunin verði ótrúverðug. Hvað segir dómsmálaráherann um þetta athæfi Ögmundur?...
Grímur

16. Febrúar 2011

EIGNARRÉTTUR Á KOSTNAĐ MANNRÉTTINDA?


...Einkaeignarrétturinn á líka góða og áhrifamikla vini. Til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var upphaflega stofnað til að verja einkaeignarréttinn, ekki almannahagsmuni, og hefur AGS verið trúr hlutverki sínu einsog við þekkjum. Evrópusambandið hefur jafnt og þétt fært sig í þessa áttina ... Hinn 28. janúar efndu Mannréttindastofnun HÍ, lagadeild HR og Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samstarfi við Evrópusambandið, til umræðu um svokallaða réttindaskrá ESB, sem er ætlað að treysta enn frekar mannréttindi þeirra sem innan sambandsins búa. Vakti ég þá máls á þessu sjónarhorni...

15. Febrúar 2011

Á FAGMENNSKA ERFITT UPPDRÁTTAR Á FJÖLMIĐLUM?


...Eyjan gerir því skóna að Ingimar Karl Helgason, fréttamaður á Stöð 2 hafi verið látinn gjalda skoðana sinna þegar honum var sagt upp störfum fyrir fáeinum dögum. Ég hef ekki heyrt Stöð 2 andmæla þessu. Ingimar Karl var eftir því sem ég best veit,  vandaður fréttamaður sem kappkostaði að allar hliðar mála kæmu fram. .. Lára Hanna Einarsdóttir var látin hætta sem pistlahöfundur á RÚV. Skýrningin var ósannfærandi. Henni var gefið að sök að hafa birt pistla sína á vefritinu smugan.is! Lára Hanna er án efa einn kröftugasti þjóðfélagsrýnir sem fram hefur komið á vettvangi fjölmiðla í seinni tíð....

15. Febrúar 2011

NORRĆN VELFERĐ?

Barnabarn mitt veiktist um helgina, fékk 40 stiga hita og verki. Í dag fór hún til læknis, beið í 40 mínútur, fékk svo tveggja mínútna viðtal þar sem henni var sagt þetta væri vírussýking og var send heim og sagt að hvíla sig, var svo rukkuð um 2600 kr. Hún er tveggja barna móðir í láglaunastarfi. Er þetta gott dæmi um ...
Jón Torfason

15. Febrúar 2011

BÖNNUM REYKINGAR UNDIR STÝRI

Mig langar til að koma til þín smá viðbótarskilaboðum varðandi þær breytingar sem eru væntanlegar á umferðalögum. Hér er um að ræða það að ég myndi vilja sjá bann við þvi að ökumenn reyki undir stýri og að reykingar í bifreiðum þar sem börn eru innanborðs séu bannaðar. Þessar hugmyndir þarf vart að ...
Steinar

14. Febrúar 2011

GEFIĐ ŢJÓĐINNI SJENS!

...Takk fyrir þitt ágæta svar. Ég skil þín sjónarmið, þú vilt lægja öldur og allt það... En! Á að drífa málið í gegn á einni viku og segja við þá sem lagt hafa vinnu í www.kjosum.is  að orka þeirra skipti ekki máli? Ég vil að þið gefið þjóðinni, þeim 16000 sem skrifað hafa undir nú þegar, og þeim 60% sem vilja Icesave í þjóðaratkvæði skv. skoðanakönnun sem MMR gerði, þann sjéns að mótmæla þeim samningi sem við höfum nú í farteskinu. Afhverju að drífa sig? Afhverju að ...
Ágúst Valves Jóhannesson

14. Febrúar 2011

HVERS VEGNA ŢENNAN FLÝTI?

Nú sýna skoðanakannanir að næstum tveir þriðju hlutar þjóðarinnar vilja að Icesave fari í þjóðaratkvæði. Verið er að safna undirskriftum því til stuðnings. Á sama tíma ætla þingmenn að flýta afgreiðslu málsins, væntanlega í þeirri von að ekki reyni á vilja þjóðarinnar. Ef undirskriftasöfnunin gengur vel og forseti vísar málinu til þjóðarinnar og þjóðin fellir, er þá ekki einsýnt að...
Hreinn K

14. Febrúar 2011

TAKIĐ YKKUR TAK

...Tólfunum fannst mér kastað fyrir um viku síðan þegar Unnur Brá Konráðnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks fullyrti í þættinum Vikulokin að vandi hjónanna sem fóru til Indlands til að fá staðgöngumóður fyrir barn sitt hafi stafað af klúðri ríkisstjórnarinnar. Í þættinum komu líka fram tveir stuðningsmenn stjórnarinnar, annar var þingmaður þíns flokks, Þráinn Bertelsson, og hitt Þórhildur Þorleifsdóttir sem er með innstu koppum í búri Samfylkingar og bæði létu þetta yfir sig ganga án þess að segja múkk eða einu sinni spyrja þingmanninn í hverju klúður ráðuneytisins væri fólgið....
Guðmundur J. Guðmundsson

14. Febrúar 2011

HVAĐ ŢARF TIL AĐ ICESAVE FARI Í ŢJÓĐARATKVĆĐA-GREIĐSLU?

...Ég vil fá að spyrja þig hvað þarf til, til að þú gefir því atkvæði þitt að setja Icesave málið í þjóðaratkvæðisgreiðslu? Og hver er skoðun þín, viltu fá málið í þjóðaratkvæði?
Ágúst

12. Febrúar 2011

MUNDU MIG - ÉG MAN ŢIG

...Ég er sammála Hreini K. og Helga að samráð pólitísku yfirstéttarinnar í Icesave málinu ... frá A til Ö ... er óþolandi, enda and-lýðræðislegt. Af hverju hefur þú Ögmundur, sem málsvari hins opna og virka lýðræðis, ekki forgöngu um að þessu máli verði vísað til þjóðarinnar? Þú ert innanríkisráðherra og þér til upplýsingar, þá verður hér enginn friður nema þjóðin fái að segja sitt ... enn á ný ... þó yfirstéttina dreymi um annað í sandi strútsins handanheima.
Svo vil ég beina allt annars konar spurningu til þín líka...
Jón Jón Jónsson

10. Febrúar 2011

TIL ÖRYGGIS?

Hvaða hagsmunir eru fólgnir í að gangast undir Icesave-okið? Getur einhver skýrt það út? (Og þá helst án þess að tala um að verið sé að stunda björgunarstarf á strandstað, moka flórinn, sækja á brattann, grafa sig í gegnum skaflinn, fara í kalda sturtu, sigrast á vandanum, þreyja þorrann, koma hjólum atvinnulífsins af stað og svo framvegis.) Fari Bretar í mál, þá það. Ef það tapast í rétti sem...
Hreinn K.

6. Febrúar 2011

REGLUSTRIKUFÓLKIĐ OG LEO TOLSTOY

...En jafnvel þótt menn séu reglustrikumenn og vilji koma öllum niður í ferköntuð box  þurfa þeir engu að síður að fara rétt með. Og best finnst mér fara á því að maður fái sjálfur að gera grein fyrir skoðunum sínum án þess að reynt sé að afbaka þær og afmynda. Það má Björn Bjarnason vita að ég er fullfær um að finna út úr því sjálfur hvernig ég hugsa...

6. Febrúar 2011

MÁL AĐ LINNI Í ICESAVE

Ég er ósammála Helga hér á síðunni sem hamast af hörku gegn Icesave. Sjálfur hef ég alla tíð verið á móti Icesave og lít á samninginn sömu augum og Helgi - fjárkúgun og ofbeldi annars vegar, undirlægjuhátt hins vegar. En nú er mál að linni. Vega þarf og meta af yfirvegun hagsmuni okkar Íslendinga. Það er slæmt að þjóðin rífi sig lengur á hol í deilum ...
Grímur

6. Febrúar 2011

SAMRÁĐ PÓLITÍSKU YFIRSTÉTTAR-INNAR!

Þá er komið á daginn að núverandi ríkisstjórn sem hefur ötullega rekið sömu stjórnmálastefnu og Sjálfastæðisflokkurinn og hjálparflokkar hans, sem eyðilagt hefur íslenskt þjóðfélag undanfarin rúm tuttugu ár og að lokum komið þjóðinni á hausinn. En nú í ábætir til þakklætis hafa þeir fengið góða meðbræður í stjórnmálunum, þar sem félagar þeirra eru orðnir t.d. Bjarni Benediktsson, Þorsteinn Pálsson og hinn heiðvirti fyrrum forsætisráðherra Geir Hilmar Haarde, AGS, ESB og seðlabankamafían svo aðeins ...
Helgi

6. Febrúar 2011

HVER SVARI FYRIR SIG

Birtist í DV 04.02.11.
DV...Það breytir ekki hinu að dómur Hæstaréttar og viðbrögð mín eru sjálfstætt mál sem ber að skoða sem slíkt. Ég hef sagt og segi enn að ég tel að Hæstarétti hafi orðið á í ákvörðun sinni og er ég þar á sama máli og fjöldi lögspekinga. Sýnist mér þeim fara fjölgandi sem eru þeirrar skoðunar. Það breytir því ekki að úrskurðinum hlítum við til hins ítrasta á sama hátt og við förum að þeim landslögum sem við erum ósátt við...Ekki hef ég oft séð kröfur reistar á hendur ráðherrum um afsögn í seinni tíð, hvorki í þessu blaði né annars staðar. Spurning hvort menn hafi nú fundið rétta tilefnið? Þeirri spurningu svari hver fyrir sig.

4. Febrúar 2011

ER ENGINN ÖRYGGISVENTILL?

...Þeir vissu ekki að mörg ár eru síðan lagt var af að flokkarnir  mættu hafa fulltrúa í kjördeild til að miðla þaðan upplýsingum, og rugluðu að öðru leyti saman þessum kosningum og alþingiskosningum. Þeir vissu heldur ekki að rafræn talning kallar á það að kjörseðlar séu auðkenndir, og jafnvel þótt hægt væri að tengja seðil við kjósanda, eins og gert er í Bretlandi til þess að hægt sé að nota ef upp kemur grunur um kosningasvindl, þá telst kosningin samt leynileg. Þeir misskildu ákvæðið um læsta kjörkassa og héldu að málið snerist um lykilinn, skildu ekki að innsigli er öruggara en lykill; ef innsiglið er brotið væri kosningin dæmd ógild, en sá sem er trúað fyrir lykli getur opnað kassa og lokað óséð.
Nú hefur þú sagt, Ögmundur, að virða beri dóm Hæstaréttar í hvívetna, annars sé réttarríkinu ógnað. En er alveg sama hvað...
Lína

4. Febrúar 2011

VEIKLEIKI EĐA STYRKUR?

Engar nýjar kosningar heldur velji Alþingi það fólk sem þjóðin valdi á stjórnlagaþing. Félagshyggjufólk á skilið betri fulltrúa en þá sem alltaf eru skíthræddir við íhaldið. Það er mikið veikleikamerki ef nú á að fara að kjósa aftur. Þá VG-þingmenn sem telja að kjósa eigi aftur hvet ég til, í nafni lýðræðis, að endurskoða hug sinn. Niðurstaða hæstaréttar að ógilda kosningu til stjórnlagaþings stenst ekki skoðun, þetta fór ...
Pétur

3. Febrúar 2011

VART SĆMANDI OFSTĆKI

...Þetta er greinilega tilhugsun sem er Birni Bjarnasyni ofviða að höndla. Ljóst er að hann hefur ekki náð sér fyllilega eftir þetta viðtal í Sjálfstæðu fólki Jóns Ársæls, því svo ofarlega er honum það í sinni að þegar hann nú í vikubyrjun sá ástæðu til að hnútukastast út í mig, þá dúkkar upp þessi hugsun: Það er kominn anarkisti í ráðuneytið mitt!
Ráðuneytið hét til skamms tíma Dóms- og mannréttindaráðuneyti. Skyldi það vera almennt viðhorf í íslensku þjóðfélagi að varasamt sé að hafa í mannréttindaráðuneyti - og þess vegna dómsmálaráðuneyti -  ráðherra sem er efins um valdstjórn og vill samfélag sem ekki byggir á yfirgangi og undirokun? Eða skyldi vera eftirspurn eftir þeim viðhorfum sem fram koma hér í skrifum  Björns Bjarnasonar...

1. Febrúar 2011

HINIR VAMMLAUSU EĐA BÖRN SÍNS TÍMA?


Gleðilegt er að fylgjast með nokkrum eldri Sjálfstæðismönnum taka út siðferðisþroskann á fullorðinsaldri. Þrír valinkunnir frammámenn Sjálfstæðisflokksins, allir ráherrar í lengri eða skemmri tíma í aðdraganda hrunsins, hafa nú stigið fram með ábendingum og kröfum um að ég segi af mér ráðherraembætti eftir að Hæstiréttur úrskurðaði kosningar til stjórnlagaþings ógildar. Ekki tilgreindu þeir hvort það ætti að vera  vegna ...

30. Janúar 2011

ŢJÓĐIN Á BETRA SKILIĐ!

Hafís, hungur og hallæri þjökuðu öldum saman íslensku þjóðina með tilheyrandi mannfelli. Hins vegar stóð eitt mesta niðurlægingartímabil þjóðarinnar frá 1991 til 2008. Áróður, undirbúningur og mótun hugarfars almennings hafði við upphaf tímabilsins staðið yfir í um áratug, eða frá 1979, þegar boðuð var leiftursóknin svokallaða. Undirbúningurinn hafði aðeins eitt markmið; að ryðja götu takmarkalausrar markaðshyggju og einkaeignarréttar á Íslandi. Með því að virkja og höfða til lægstu hvata mannsins, s.s. gróðafíknarinnar, tókst smám saman að vinna frjálshyggjunni fylgi, með hugarfarsbreytingu, sem nægði til yfirtöku hennar á íslensku samfélagi við upphaf tíunda áratugarins. Þessi lágkúrulega ...
Kári

30. Janúar 2011

SEGĐU AF ŢÉR!

Kæri Ögmundur Hvers vegna í ósköpunum segirðu ekki af þér sem innanríkisráðherra? Þú berð pólitíska ábyrgð á því sem gerðist í ráðuneytinu þínu, jafnvel þótt þú hafir sjálfur ekki haft hugmynd um að það yrðu notaðir pappakassar í stað trékassa! Þú myndir líka skapa mjög gott fordæmi með því að segja af þér. Hugsaðu þér einhvern tíma í framtíðinni, þegar þú ...
Guðvarður

27. Janúar 2011

ÉG HVET ALLA AĐ KYNNA SÉR MÁLAVÖXTU!


...Ég leyfi mér að hvetja alla til að kynna sér þessi mál vel og þar með einnig úrskurð Hæstaréttar. Einhvers staðar sagði ég að mér þætti Hæstiréttur byggja úrskurð sinn á þröngri túlkun á lagabókstaf. Um þessi ummæli mín hef ég vaxandi efasemdir því mér sýnist úrskurður Hæstaréttar byggja á almennu mati en ekki þröngri lagatúlkun. Hef ég lýst undrun á úrskurði Hæsttaréttar og fært fyrir því rök með tilvísan í landslög. Það breytir því ekki að úrskurðinum ber að hlíta. Sá undarlegi skilningur var uppi hjá ýmsum sem tjáðu sig um málið á Alþingi í dag að ekki mætti finna að niðurstöðu Hæstaréttar og rökræða hana! Ef þessi skilningur yrði uppi værum við að fjarlægjast réttarríkið og réttinn til tjáningarfrelsis. Málefnalegri gagnrýni á úrskurð Hæstaréttar má ekki rugla saman við hitt að farið sé að úrskurðinum...

26. Janúar 2011

SANNGIRNI OG HAGSÝNI

Eðlilegast er að Alþingi staðfesti kjör fulltrúa á Stjórnlagaþing.Álit Hæstaréttar mun standa eftir sem áður og hægt að taka tillit til þess ef sambærilegar kosningar verða haldnar síðar. Enginn efi er á að niðurstaða kosningarinnar er í samræmi við vilja þjóðarinnar. Aðalatriðið er að ...
Eyjólfur

25. Janúar 2011

STÓRNARSKRÁIN OG ESB

Skil ekki hvaða áhyggjur þú hefur af stjórnlagaþingingu, sem hafði þann tilgang helstan að aðlaga stjórnarskrána ESB umsókn. Í nýjasta "prógress report" frá því í haust, segir: Legislation to elect an advisory constitutional assembly was adopted in June. The task of the assembly is to prepare a proposal to parliament for a new constitution. Among the issues to be addressed is delegation of powers by the State to international organisations. Má þetta ekki bara bíða og frekar ættum við að
Hreinn K

25. Janúar 2011

SIGURĐUR KÁRI KVARTAR

...Þessi vanbúnaður sem Sigurður vísar til liggur þá kannski að einhverju leyti hjá þingmönnum. Þá meina ég þingmönnum af þeirri sort sem telja starf sitt felast í því að samþykkja frumvörp ef þau virðast líkleg til vinsælda og kenna öðrum um síðar ef þau reynast ekki vel. Gæti verið að þetta dæmi sýni vanda stjórnkerfisins? Gæti verið að engin stjórnarskrá skili okkur sterku og sjálfstæðu Alþingi meðan þetta er viðhorf manna?
Árni V.

24. Janúar 2011

UM AĐFÖR AĐ HEILBRIGĐISKERFI, MAGMA OG FLEIRA


...Tilefnið af viðtalinu við Rúnar Vilhjálmsson er fréttaumfjöllun um tvö ný einkasjúkrahús sem nú eru í  burðarliðnum, gamla hersjúkraúsið á Keflavíkurflugvelli, nú nýuppgert fyrir tilstilli fjárfestingarsjóðsins Kadeco  og annað í Mosfellsbæ. Hér á síðunni hafa komið fram ströng varnaðarorð og hafa stjórnvöld verið sökuð um að standa ekki nógu vel valktina um almannahag...Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrgðisráðherra Framsóknarflokki, spyr í Morgunblaðsgrein hvort reykskynjari stjórnvalda sé ekki í lagi hvað snertir yfirvofandi hættu á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og að við þar með stefnum inn í tvöfalt kerfi. Þetta var gott og mjög þarft innlegg frá  Ingibjörgu Pálmadóttur! Gott líka hjá Stöð 2 að sýna þessu máli áhuga nú síðustu daga. Það er mikilvægt að ...

22. Janúar 2011

Á KVEĐJUSTUND


"Hún átti því ekki sannleikann, en hitt þráði hún, að sannleikurinn mætti eiga hana og því var hans sífellt leitað." Þetta sagði séra Þórir svo réttilega í minningarorðum sínum og komst þannig að sjálfum kjarnanum í hugsun móður minnar. Ólafur B. Andrésson, orðaði þetta líka vel í minningargrein sinni þegar hann sagði að Guðrún Ö. Stephensen hefði ekki verið kona stórasannleika heldur hafi hún verið kona nálgana. Hún var hvorki kona kreddu né isma og þegar Björn Patrick frændi minn sagði hana hafa verið trúaða konu þá bætti hann við að aldrei minntist hann þess að hafa heyrt hana ræða trúmál. Hennar trú var trúin á hið góða og á...

18. Janúar 2011

KOSTNAĐURINN VIĐ AĐ KJÓSA

...Oft hefur verið talað um að Evrópski fjárfestingarbankinn vilji ekki lána Landsvirkjun fyrr en Íslendingar gangi að kröfum Breta og Hollendinga um Icesave. Aldrei er þó minnst á að fjármálaráðherrar Breta og Hollendinga sitja í stjórn bankans...Við þetta bætist að nú liggja á borðinu Icesave samningadrög, þar sem Bretar og Hollendingar hafa þurft að viðurkenna að kröfur þeirra voru langt umfram það sem Brussel viðmiðin gerðu ráð fyrir. Það er mat samninganefndarinnar að sparnaðurinn frá fyrri samningi sé 110 milljarðar....Enn hefur ekki verið sýnt fram á greiðsluskyldu Íslands. Nú eru rökin fyrir því að samþykkja Icesave III þau að Icesave I og II voru miklu verri. Það sé of tímafrekt að leita réttar sins. Sæma slík rök sjálfstæðri þjóð?...
Áhugamaður um gagnrýna hugsun

18. Janúar 2011

STYRKJUM ÁS STYRKTARFÉLAG!


...Það er einmitt þetta síðastnefnda sem mig langar til að vekja athygli á, því á morgun klukkan 15 fer fram útför móður minnar, Guðrúnar Ö. Stephensen frá  Dómkirkjunni í Reykjavík. Það væri mjög kærkomið og í hennar anda að þeir sem vildu minnast hennar gerðu það með stuðningi við þá mikilvægu starfsemi sem fram fer á vegum Áss styrktarfélags. Á heimasíðu Áss styrktarfélags er reitur þar sem komast má inn á ...

18. Janúar 2011

MEINT TREGĐA INNANRÍKISRÁĐUNEYTISINS

Birtist í Morgunblaðinu 15.01.11.
MBL  - Logo...Ég ítreka að málið er gríðarlega viðkvæmt og allir hlutaðeigandi auðsæranlegir. Sársaukinn getur orðið mikill þegar almenn umræða er heimfærð á einstök tilvik. Þess vegna hef ég viljað forðast að samtvinna þetta tiltekna persónulega mál umræðu sem við þó erum nauðbeygð að taka ef við ætlum að vera sjálfum okkur samkvæm...

15. Janúar 2011

VAKANDI ÓLÍNA, SOFANDI FJÖLMIĐLAR, DAUĐ PÓLIITÍK!!!

Takk Ólína. Sunna Sara skoraði á þig að skrifa hér á síðuna einsog þú hefur svo oft gert. Í hjarta mínu tók ég undir þessa áskorun. Síðan hafa komið tveir pistlar frá þér. Annars vegar um verktakabransann hjá ykkur í vinstri stjórninni Ögmundur og hins vegar einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og aulaviðbrögðin við því úr Stjórnarráði og Alþingi (Guð minn góður Guðbjartur, Þuríður...! ). En með hliðsjón af gagnrýni þinni á fjölmiðla Ögmundur langar mig til að spyrja hvernig á því standi að einhver Ólina....
Jóel A.

14. Janúar 2011

AD HOMINEM


Á latínu er til hugtak sem margir eflaust þekkja, ad hominem eða argumentum ad hominem.  Þetta er notað þegar rökræða beinist að persónu þess sem heldur fram málstað fremur en málstaðnum sjálfum. Í pistli hér á síðunni, Er verið að biðja um þögn? , fjallaði ég um fjölmiðla og tilhneigingu þeirra til að gera einmitt þetta, að beina athygli að málflytjanda en ekki málstað. Þótti mér þessi afstaða einkenna gagnrýnisleysi og yfriborðsmennsku sem var einkennandi í aðdraganda hrunsins. Sjálfur hef ég oft fengið að kynnast þessu. En viti menn, það sem helst hann varast vann, varð þó að koma yfir hann... Í umfjöllun minni  vísaði ég máli mínu til ...

14. Janúar 2011

NORRĆN VELFERĐ

Nú reisa þeir einkasjúkrahús, kjánarnir. Og heilbrigðisráðherrann fagnar, og formaður heilbrigðisnefndar Alþingis brosir vandræðalega og óttast að laun heilbrigðisstarfsmanna kynnu að hækka. En hvernig eru einkaspítalarnir íslensku hugsaðir? Menn hyggjast reisa einkaspítala. Einn í fitusog, annar í mjaðir og hné, sá þriðji í tennur. Talsmaður sameinaðra sérhagsmuna væntanlegra eigenda spítalanna er alþingismaðurinn Magnús Orri Schram og fyrrverandi alþingismaður og nafni Magnúsar hyggst græða á því að stofna sjúklingamiðlun. Og þetta er alls ekki gert til að sinna Íslendingum heldur ríkum útlendingum sem vilja láta Mörlandann lækna sig.
Maður spyr sig: Ef þeir eru svona ...
Ólína

14. Janúar 2011

ÍBÚAR Í GÍSLINGU

Látum eitt yfir alla ganga. Enginn greiðir veggjald sem fer um fjallgöng á Íslandi. Einu veggjöldin eru við Hvalfjarðargöng rétt utan Reykjavíkur. Nú stendur jafnvel til að taka íbúa á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannsveitarfélögunum í gíslingu. Enginn skal komast út fyrir borgarmörkin né inn fyrir þau nema ...
Skarphéðinn P. Óskarsson

13. Janúar 2011

VERKTAKA FYRIR VINSTRI MENN

...Þessar upplýsingar sem DV hefur birt sl. tvö ár hljóta að gefa mönnum tilefni til að skoða bæði eignarhald, verkefni og greiðslur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna til fyrirtækjanna í Lækjagötu 4, ekki bara frá 1. janúar 2009 heldur frá 1. janúar 2007. Á þessum tíma hafa setið tvær ríkisstjórnir, hægri stjórn Sjálfstæðis- og Samfylkingar og miðjustjórn VG- og Samfylkingar. Ef við höfum í huga setningu úr bréfi Ríkisendurskoðunar frá í júní 2009 "...Þá er ljóst að bjóða hefði átt út ráðgjafarverkefnið sem InDevelop var falið. Telur Ríkisendurskoðun að ráðuneytið þurfi að endurskoða verklag sitt við kaup á sérfræðiþjónustu." þá hljóta menn að spyrja: Af hverju eiga fyrirtækin inDevelop og Stjórnarhættir þetta innhlaup hjá tveimur ráðuneytum eða þremur? Eða með öðrum orðum, hver er samningamaðurinn af hálfu almannavaldsins á þessu ...
Ólína

11. Janúar 2011

SAKNA ÓLÍNU!

Eitthvað hefur dregið úr skrifum Ólínu hér í lesendadálkinum hjá þér Ögmundur. Ég sakna skrifa hennar. Ég er löngu búinn að sjá að þetta er ekki Ólína þingkona sem ég hélt um hríð. Meira sammála þinni Ólínu Ögmundur! Óvenjulega skörp skrif úr hennar penna. Lát heyra frá þér Ólína!
Sunna Sara 

11. Janúar 2011

ER VERIĐ AĐ BIĐJA UM ŢÖGN?


..Til að þetta gangi upp mega menn ekki óttast ágreining, aðfinnslur, gagnrýni. Ekki hef ég neitt við það að athuga þótt samstarfsfólki í Samfylkingunni skuli hafa þótt andstaðan við að senda inn umsókn að ESB á sínum tíma bera vott um þröngsýni VG, eða þótt Róbert Marshall, svo tekið sé nýlegt dæmi, hafi þótt skorta pólitíska forystu við sandmokstur í Landeyjarhöfn, eða þótt Merði Árnasyni, samflokksmanni hans, þyki ...

9. Janúar 2011

INN UM BAKDYRNAR?

...Undanfarnar vikur hafa heitar umræður og skrif átt sér stað um hin ýmsu málefni sem nú eru þjóðinni aðsteðjandi og eflaust þau flest af toga mikilvægis og þurfandi úrlausna. Þó hefur algerlega gleymst í skammar- og gífuryrðar orðræðunni, að ESB er á leiðinni inn um bakdyrnar á fiskveiðilögsögu okkar beitandi fyrir sig evrópskum fjárfestingarrisa og virðist nú eiga greiðan aðgang með fulltingi og stuðningi Vestiu nokkurrar er hyggst selja þeim Icelandic Group. Vá þessi er ógnarleg í mínum huga og finnst mér að mál þetta beri að skoða þar sem ríkið ætti að eiga greiðan aðgang að ákvarðanaferlum Landsbankans. Eflaust er ...
Óskar K Guðmundsson fisksali.

3. Janúar 2011

Baldur Andrésson skrifar: SÉREIGNADELLA Í UPPNÁMI UM ÁRAMÓTIN 2010 / 2011

Fyrst almenn áramótakveðja um kjarna máls: Stórþrýstingur frá STÓRVEKTÖKUM m.a. innan SA hefur mótað fyrirætlanir um vegagerð óeðlilega. Ær og kýr slíkra eru fá milljarðaverkefni, sem þeir ætla sér einir að sitja að. (Autobahnar og jarðgöng). Slík verkefni krefjast lítils mannafla m.v. risaútgjöldin. Margar smærri framkvæmdir, smærri verkhlutar og mögulega aðrar áherslur (t.d. 2+1 vegir í stað 2+2) gefa mörgum smáverktökum mikil tækifæri og þau skapa samtals meiri mannaflaþörf m.v.tilkostnað. Margt mælir því með áherslubreytingu nú, breyttri hugsun, sem að auki yrði að alþýðuskapi á Íslandi... 

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EĐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLĆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIĐLAR SKOĐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóđin mín:

Allar greinar

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta