29. Desember 2010
...Nú get ég ekki lengur orða bundist vegna samgöngumála hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég hef fyrir nokkru síðan gefið upp alla von um að við hér á höfuðborgarsvæðinu, sem borgum að langmestu fyrir vegakerfi landsins, fáum úrbætur á hættulegustu vegaköflum landsins, þar sem flest dauðaslys verða. Þá er ég að tala um Vesturlandsveg og Suðurlandsveg. Nú eru uppi hugmyndir um að að taka vegtoll af höfuðborgarbúum, sem hafa þó verið nógu góðir til að ...
Stefán Þórsson, Kjalarnesi
29. Desember 2010
Sæll Ögmundur - Venjan er sú að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fái svona meðferð hjá Samfylkingarfjölmiðlunum og er þá sannleikurinn ekkert að þvælast þar fyrir. Nú er sá góði drengur Ásmundur Einar skotspónninn. Sf væntanlega að hefna sín. En er nú ekki kominn tími til þess að þingmenn hætti gífuryrðum í garð hvers annars og reyni að endurheimta eitthvað af virðingu þingsins? Svona skrif um Ásmund eða aðra þingmenn dæma sig sjálf. Ummæli Björns Vals um þremenningana og aðra eru hans orð og dæma hann sjálfann en niðurlægja þingið í leiðinni. Árni Þór svarar væntanlega ...
Ólafur I. Hrólfsson
29. Desember 2010
Æ Ögmundur. Þið samþykktuð að taka þátt í þessari ríkistjórn og að sækja um aðild að EB og leyfa síðan fólki í atkv.greiðslu að ákveða hvort að það vildi inn eða ekki. Ég treysti hvorki Ásmundi (sem hefur verulega sérhagsmuni að gæta, t.d. að meina mér að borða "Gamle Ole" ost sem er eitthvað sem við kunnum ekki að framleiða) og ekki heldur treysti ég þér til að ákveða þetta fyrir mig. Af hverju ekki að láta fólkið í landinu ákveða þetta? Eða eruð þið svona miklir "besserwisser" að þið teljið að þið vitið þetta í nafni þjóðarinnar. Ég vil taka það fram að ég er vinstri maður og hef alltaf verið það, alinn upp á Hagamel og aldrei kosið ....
Skarphéðinn Gunnarsson
28. Desember 2010
Þakka þér fyrir að vekja athygli á skipulagðri rógsherferð á hendur Ásmundi Einari Daðasyni þingmanni VG. Þú gleymdir að vísu að telja upp eyjuna.is sem hefur ekki látið sitt eftir liggja yfir hátíðarnar. Það er mikill misskilningur að þetta snúist um hjásetu ÁSD við fjárlagafrumvarpið. Mitt mat er að þetta snúist einvörðungu um andstöðu Ásmundar Einars við ESB umsóknina. Þar kemur heiftin og þar truflar hann hugsanlega inngöngu í himnaranninn sjálfan. Slíkt gengur náttúrlega ekki af hálfu sanntrúaðra.
Jóel A.
28. Desember 2010

...Allir þessir fjölmiðlar hafa hamast á hinum unga galvaska þingmanni Dalamanna Ásmundi Einari Daðasyni. Hann leyfði sér að vera á móti því að sækja um aðild að ESB. Og hann vill ekki láta segja upp starfsfólki á heilbrigðisstofnunum, krafðist úttektar á afleiðingum fjárlagafrumvarps, fékk ekki og sat því hjá. Ásmundi Einari spái ég bjartri framtíð í íslenskum stjórnmálum. Hvers vegna? Jú vegna þess að hann er fylginn sér, heiðarlegur, skeleggur og drengur góður. Ég er oftast sammála honum. Ekki alltaf. ...En hvað veldur því að tilteknir fjölmiðlar sameinast um að rægja þennan ágæta mann? ...Hver heldur um níðpennana á framangreindum fjölmiðlum? Kannski gæti handhafi blaðamannaverðlauna BÍ fundið þetta út fyrir okkur. Kannski gæti hann ...
26. Desember 2010
Ég held að það sé mikilvægt að taka þessa umræðu ekki um einstaka vegaspotta heldur út frá því hvaða leið á að velja til framtíðar við skattlagningu. Það er ekkert sem bendir til þess að við þurfum að flýa okkur við þessa ákvörðun, rafbílar eru fáséðir á götum og verða það næstu ár. Ekki er vandamál að nota núverandi kerfi við skattlagningu á aðra orkugjafa svo sem vetni og metan. Í fréttum hefur komið fram að Hollendingar hafa frestað sínum gervihnattapælingum vegna kostnaðar. Fyrverandi vegamálaráðherra talar eins og kerfið sé til og þetta verði ekkert mál. Formaður FÍB hefur verið með góð rök og upplýsingar. Tel undarlegt að í ljósi þess að ...
Haukur Harðarson
26. Desember 2010
Ef ég hef skilið málflutning þinn í gegn um tíðina rétt vilt þú virða mannréttindi fólks. Nú ertu dómsmálaráðherra og þess vegna vil ég vita hvort þú hyggst breyta því misrétti að sumar fjölskyldur geti borið ættarnafn en aðrar ekki. Þetta er klárlega brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Ég er í þeirri stöðu að vilja ekki bera kenninöfn foreldra minna af góðum ástæðum en stjórnvaldið á Íslandi hefur sett lög sem ...
Ísak
26. Desember 2010
Tek heilshugar undir Pétri (23.12.2010). Er og hef verið eindreginn stuðningsmaður VG undanfarin ár. Eftir hryðjuverk Lilju og co. undanfarin misseri þá efast ég stórlega um að flokkurinn sé atkvæðis virði. Vona þó að þetta ástand lagist. Það er í lagi að vera með andstæðar skoðanir. Berjast fyrir þeim af hörku innan flokks og halda sínum sjónarmiðum á lofti. Síðan er haldin atkvæðagreiðsla eða tilteknum aðilum falið að komast að niðurstöðu, þá er það niðurstaða sem á að fylgja því að á endanum þá er stjórnarseta eðli málsins samkvæmt, málamiðlun margra þingmanna og ólíkra skoðana. Menn eiga að fylkja sér um ...
Kristján
25. Desember 2010

...Martin Luther hafði hugrekki til að rísa gegn valdakerfum og vanahugsun sinnar samtíðar. Þetta er einnig kjarninn í boðskap séra Gunnars, eins og ég skil hann...Séra Gunnar vill að við speglum okkar eigin samtíð í boðskap kristinnar trúar :
„Þetta sakar ekki að hafa í huga einmitt nú þegar svo mjög er leitað að grunngildum samfélagsins, og hin góðu gildi lífsins eru hafin til vegs og virðingar á ný og nýrra leitað ...Tveir þjóðfundir skrásettu helstu gildi, sem þeir álitu einstaklingum og þjóðinni allri farsælast að hafa í heiðri. Lífsgildalisti þjóðfundanna er í stórum dráttum náskyldur hinum klassísku dyggðum kristins samfélags aldanna...Hinar sjö höfuðdyggðir kristninnar: trú, von og kærleikur, viska, hugrekki, réttlæti og hófstilling, sáu aftur dagsins ljós - en þó ekki allar...
23. Desember 2010

...En ég skal játa að mér þótti gott að heyra í fréttum nefndar háar tölur um bókaveltuna fyrir þessi jól. Svo var að skilja að þetta yrðu góð bókajól! Það er held ég séríslenskt; að allir kaupi bækur að gefa og síðan séu þær lesnar á jólunum. Enn eru jólin ekki að fullu gengin í garð þegar þetta er skrifað en ég er þegar með
Péturspostillu (Gunnarssonar) á borðinu og
Þú sem ert á himnum, Úlfars Þormóðssonar er þarna líka og svo bætist við... meira um það síðar. En það sem ég hef þegar lesið lofar góðu! Aftur að gjöfunum - öðrum en bókum. Einu sinni var með okkur kínverskur maður á jólum. Samstarfsmaður konu minnar. Hann sat í losti á meðan tekið var utan af gjöfunum - við vorum þá mörg í heimili og gestir að auki. Gríðarlegt magn gjafa. Og þarna sat hann þessi ...
23. Desember 2010

Síðastliðinn föstudag var jarðsunginn frá Guðríðarkirkju Matthías Björnsson, loftskeytamaður og kennari með meiru. Já, miklu meiru. Matthías var mikill Íslendingur og elskaði land sitt og þjóð. Útförin bar þess og merki, ættjarðarlögin ómuðu í bland við kristilegan boðskap. Hver á sér fegra föðurland, Þótt þú langförull legðir sérhvert land undir fót bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót... Matthías fór víða um lönd sem loftskeytamaður á skipum og í andanum var hann sífellt á ferðinni, brennandi af áhuga á málefnum líðandi stundar sem hann fléttaði jafnan arfleifð fyrri tíðar...
23. Desember 2010
Birtist í Morgunblaðinu 22.12.10

Í fyrirsögn Morgunblaðsins í gær segir að ég hafi fyrst frétt af hjásetu þriggja þingmanna VG við atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið. Þetta er ekki rétt. Ég hafði frétt af þessu áður og málið síðan verið til umræðu á þingflokksfundi fyrir atkvæðagreiðsluna. Að þessu leyti kann ég að hafa verið óljós eða misvísandi í ummælum við fréttamann. En að þessu frátöldu er fréttin rétt. Þannig er rétt eftir mér haft í beinni tilvitnun...
23. Desember 2010
það er fyndið að sjá og heyra að Bretar og Norðmenn ætli sér að banna Íslendingum að veiða makríl í þeirra lögsögu, sérstaklega í ljósi þess að fyrrnefnda þjóðin stundaði hér rányrkju í marga áratugi upp í landsteinum (að vísu með leyfi Dana á meðan þeir réðu hér) Norðmenn aftur á móti voru búnir að eyða öllum hval kringum landið um 1911. Hvað vill þetta fólk upp á dekk?
Edda
23. Desember 2010
Ég hef ekki alltaf deilt með þér skoðunum Ögmundur, en talið þig þó þokkalega heiðarlegan, án tilburða til undirferlis. Nú kemur í ljós að þú situr að svikráðum með lökustu félögum VG gegn eigin ríkisstjórn og öðrum samstarfsfélögum! Þú hlýtur að gera þér grein fyrir að þetta getur ekki gengið upp. Vinstri menn á Íslandi hafa aldrei getað unnið saman. Þegar þeir komast til valda þá eru það alltaf einhverjir meðal þeirra sem fara að dansa þegar herrarnir í Hádegismóum þenja nikkuna. Einu sinni var það Finnbogi Rútur, þá Hannibal, svo Eðvarð og Björn og þá hefur Hjörleifur Guttormsson, með óraunsæjum kröfum, ekki látið sitt eftir liggja með að brjóta niður tilraunir til að byggja upp félagslega réttlátt samfélag ...
Pétur
21. Desember 2010

Þrír þingmenn VG sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga í síðustu viku. Það hefur orðið stjórnmálamönnum og fjölmiðlafólki umræðuefni og sumum hneykslunarefni. Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, talaði um óstjórntækt fólk, haldið öfgaskoðunum. Þorsteinn Pálsson, fréttaskýrandi í laugardagsútgáfu sama blaðs, sá hinn sami og telur að stjórnmálamenn gangi kaupum og sölum, talar í sömu veru. Hvorugur treystir sér til að skilgreina þessar meintu öfgar - báðir láta sér nægja að fordæma. Flokksfélagi minn - starfandi þingflokksformaður í fjarveru Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, sem er í fæðingarorlofi - segist í Kastljósviðtali vart trúa Morgunblaðsfrétt um að hjásetumenn hafi átt spjallfund með tveimur ráðherrum, Jóni Bjarnasyni og Ögmundi Jónassyni ásamt þingflokksformanni í fæðingarorlofi. Honum er alveg óhætt að trúa fréttinni - enda var ég búinn að...
18. Desember 2010
Quis custodiet ipsos custodes ? ( Hver gætir varðanna) er latneskt orðtak spunnið af vangaveltum Sókratesar, sem Platon staldraði við í ritinu Ríkið (Poleitia). Grísku kallarnir spáðu m.a. í hvort herstjórar varnarliðs Aþenu mundu sjálfir ógna lýðræði borgarbúa ef þeim hentaði svo í krafti valdsins, sem þeim var falið. Platon var bjartsýnn. Hann taldi að verðina mætti móta hugarfarslega. Verðina þyrfti að sannfæra um að heiður þeirra væri öllu ofar, fégræðgi eða ásókn í kúgunarvald gagnvart almenningi þyrfti að gera að eitri í beinum þeirra. Þá yrði vörðunum treyst. Spurningin um verðina snýr auðvitað líka að lýðkjörnum fulltrúum. Spurnin getur verið um hvort þeim leyfist að...
18. Desember 2010
"Slík leikflétta myndi því litlu breyta og vandséð að hún gæti gefið fólkinu í landinu nýja von." Þannig endar Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi afsettur formaður Sjálfstæðisflokksins, maðurinn sem hóf einkavæðingaferli Sjálfstæðisflokksins með sölu, sumir sögðu gjöf, Síldarverksmiðjanna til þóknanlegra og afkomenda þeirra, maðurinn sem festi í sesssi framsalið í kvótakerfi Halldórs Ásgrímssonar. Svona endar hann enn einn pistilinn hjá skoðanabræðrum sínum rit-og fjölmiðlastjóranum, sem áður og fyrr var aðsoðarmaður sendiherrans við Skúlagötu...Umræðan má ekki verða svona prívat og þröng og snúast um eitthvað sem gerðist á fundi fyrir hálfu
tuttugasta ári...
Jóna Guðrún
17. Desember 2010
Reynslan af því að hafna Icesave er góð. Gengið hækkaði, vextir lækkuðu, skuldatryggingaálag lækkaði, álversframkvæmdir töfðust, sjálfstraust þjóðarinnar jókst. Þjóðaratkvæði um Icesave er lýðræðisleg nauðsyn.
Hreinn K
17. Desember 2010
Nú er VG flokkur sem stendur fyrir umhverfisvernd. Hvernig stendur á því að þið reynið ekki að auka almenna reiðhjólanotkun landsmanna t.d. með því að fella niður tolla af reiðhjólum og lækka virðisaukaskattinn sem er settur á reiðhjól.
NN
17. Desember 2010
Icesave samningurinn hlýtur að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Á almenningur að greiða skuldir óreiðumanna og einkafyrirtækja? Engin lög segja að íslenskir skattgreiðendur eigi að greiða innistæðutryggingar í Englandi og Hollandi. Nýja Ísland krefst þess að þjóðin taki ákvörðun. Spurning mín er þessi: Styður þú ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um þennan nýja Icesavesamning Ögmundur? Já eða nei...
Pétur
15. Desember 2010
Ef það er rétt hjá félögum þínum Jóhönnu og Steingrími að nýi Icesave samningurinn sé nánast eins og sá gamli, þá bendi ég á að þjóðin er búin að hafna þessum samningi. Mér sýnist þau aðeins of dugleg í vörninni...
Hreinn K
15. Desember 2010
Til samgönguráðherra. Ég er aldeilis rasandi yfir ætlun þinni að setja aukinn skatt á bifreiðaeigendur. Sú skattheimta kemur hrikalega misjafnlega niður, höfuðborgarbúar geta mögulega dregið úr bifreiðanotkun og notað strætó, en hér úti á landi er enga slíka þjónustu að hafa og fólk þarf oft að sækja tugi kílómetra í vinnu. Ofan á allan annan ójöfnuð sem ...
Bryndís Símonardóttir
15. Desember 2010
...Ég er algjörlega á móti vegatollum til að fjármagna vegagerð!!! Þetta hefur verið notað í Bandaríkjunum og í Kanada og sjálfsagt í fleiri útlöndum, en er mjög misheppnuð aðferð til að fjármagna vegagerð og viðhald. Í Kanada hefur þessu sem betur fer verið hætt. Gera sprenglærðu spekingarnir sér ekki grein fyrir því að það mun taka að eilífu að greiða fyrir vegagerð með vegatollum þar sem oft mun ekki koma inn fyrir kostnaðinum á innheimtunni! Hefur enginn gert sér raunhæfa grein fyrir raunverulegum kostnaði á...
Helgi
15. Desember 2010
...Jarðgangagerð undanfarin ár hefur verið á kostnað allra í landinu og ekkert rukkað sérstaklega fyrir notkun á þeim. Nú er verið að gera einhverjar sjálfsagðar vegabætur hér á suðvesturhorninu og þá er gripið til vegatolla til að fjarmagna framkvæmdina. Hvaða réttlæti er þetta eiginlega? ... Hver bað um þessa framkvæmd? Vissi sá aðili að þetta væri fjármögnunarleiðin? Hver er skoðun þín á þessu öllu saman?...
Gunnar Sigmundsson
12. Desember 2010
Þú hlýtur að þurfa að taka þig á þegar þú er beðinn um að birta hatrammar skammir um þig einsog hér á síðunni frá einhverjum NN sem sakar þig og þína samherja um að stunda skemmdarverk (!)...Annars skrifa ég þér til að þakka fyrir að vekja athygli á rangtúlkunum fréttaskýrenda um Icesave...Atkvæðaskýringar Ásmundar Einars og Guðfríðar Lilju sem þú gefur slóðir á í pistlinum opnuðu augu mín. Ég ætla að þetta fólk lesi síðuna þína. Við þau vil ég segja...
Jóel A. (get upplýst að hef verið kjósandi VG í öllum kosningumVG hingað til.)
12. Desember 2010

...Þegar fjölmiðlar rifja upp söguna þykir mér þeir heldur betur gleyma því að það var fyrst og fremst fyrir tilstilli þingmanna úr stjórnarmeirihlutanum að fór sem fór. Þetta mál hefði farið miklu fyrr í gegnum þingið og hljóðlegar ef ekki hefði komið til barátta þessa fólks sem að lokum kom málinu til þjóðarinnar án þess að stjórnin færi frá einsog forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar höfðu hótað að gera. Þetta þekki ég sem ráðherra sem sagði af sér ráðherradómi vegna þessa og einnig áður sem stjórnarandstæðingur á Alþingi í langan tíma...Nú er spurningin hvað forsetinn gerir. Ég hygg að það hljóti að ráðast af hvaða afstaða verður tekin til samningsins á þingi og í samfélaginu almennt. Forsetinn skýrði ákvörðun sína um að skjóta málinu til þjóðarinnar í ljósi lýðræðislegrar andstöðu við málið - innan þings og utan, ekki með skírskotun til málsins sjálfs. Þetta er lykilatriði.
Með hliðsjón af þessu leyfi ég mér að...
12. Desember 2010
Á nú aftur að fara að rífast um icesave? Hvenær kemur að því Ögmundur að þú og þínir líkar þagnið? Á mannamáli: Haldið ykkur saman og gefið vinstri stjórn vinnufrið? Nóg er komið af skemmdarverkum ykkar....
NN
12. Desember 2010
...Hvað ætla bankarnir að gera við seldar íbúðir sem þeir hafa keypt á slikk langt undir markaðsverði og skuld eiganda við þá? Þeir fá fullt af eignum á silfurfati en eru ekki tilbúnir að gera neitt til afskriftar lánum sem eru á hálfvirði hjá þeim. Ekki meira í bili, góða helgi og gleðileg jól. Einhverjir eiga ekki gleðileg jól og þá hugsar maður til þeirra. Einhverjir á götunni, aðrir standa í röð og bíða eftir mat og einhverjir að bíða eftir kraftaverki.
Jóna Jóns.
12. Desember 2010
Það er náttúrulega fínt, að kjörin séu betri nú, en þau voru. Allt annað hefði nú verið "katastrófa", svo vægt sé að orði kveðið. Það sem mig langar hinsvegar að spyrja þig um Ögmundur er: Hver heldur þú, að sé orðinn kostnaður þjóðfélagsins (beint og óbeint), vegna þess þófs, sem var viðhaft á Alþingi á sínum tíma og síðan neitunar "Keisarans" á lögunum og eftirfarandi þjóðaratkvæðagreiðslu og nýtt samningaferli?? ....
Snæbj.
12. Desember 2010
...Trúboð þeirra gengur út á að ljúga upp á þig sakir og endurskrifa söguna svo mjög að minnir helst á það þegar hægriöfgamenn afneita þróunarkenningu Darwins. Vill kirkjumálaráðherrann verja svona ofsatrúarlið út í hið óendanlega? Lið, sem afbakar sannleikann miskunnarlaust og klastrar upp helgimyndum af AGS og ESB og Magma og Icsave svo tilbiðjendurnir verða sturlaðir og hringsnúast sem snældur og verða þannig snældu-vitlausir og hugsa ekki lengur skýrt, heldur hlaupa út um allar koppagrundir og velli með blinda augað á kíkinn í tossabandalagi og af hjarðeðli og baula að þetta sé allt glæsilegt, því Steingrímur segi það og Svavar segi það og Indriði segi það og Þórólfur og RÚV segi það. Þetta lið er orðið ...
Pétur Örn Björnsson
9. Desember 2010

...Þetta breytir að sjálfsögðu ekki því að það skiptir sköpum hvernig stjórnmálmenn halda á málum á hverjum tíma og það var úrslitaatriði að mínu mati að fá okkur til aðstoðar einn færasta samningamann á þessu sviði á heimsvísu: bandaríska lögfræðinginn Lee Bucheit. Það er ekki á allra vitorði að það var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, sem fékk Bucheit að borði. Snemma sumars 2009 kom hann hingað til lands að áeggjan Guðfríðar Lilju og átti hann þá - einnig að hennar frumkvæði - fund með íslenskum ráðamönnum. Það var þó ekki fyrr en á þessu ári að Bucheit kom inn í samninganefndina, aftur að áeggjan Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur þótt ýmsir aðrir tækju nú undir. Mat hennar á hæfileikum Bucheits við skákborð þessara erfiðu samninga hygg ég að hafi verið rétt...
9. Desember 2010
Það eru talin vera ein af frumskyldum ríkisstjórnar að verja hagsmuni þjóðarinnar. Þegar ríkisstjórnin lætur undir höfuð leggjast að færa fram málsvörn gagnvart ESA í Icesave málinu, hlýtur það að teljast ámælisvert. Það er ekki hægt að afsaka athafnaleysi. Það er Geir Haarde að horfast í augu við. Gildir það ekki líka um núverandi ríkisstjórn? Hreinn K.
9. Desember 2010
... Það er óvéfengjanleg staðreynd að ýmsar rannsóknarniðurstöður Íslenskrar erfðagreiningar eru mjög merkar og skipta máli á heimsvísu. Af þessu hygg ég að við séum öll stolt. Það á vissulega við um mig sjálfan. Í umræddu útvarpsviðtali sagði ég að á tuttugustu öldinni hefðu grunnrannsóknir verið fjármagnaðar af hinu opinbera og semiopinberum háskólum. Þessi þekking hefði verið öllum opin og frjáls. Eða þar til markaðsvæðingin hóf innreið sína fyrir alvöru inn í þetta umhverfi undir lok síðustu aldar. Þessa umræðu tókum við í tengslum við stofnun ÍE á sínum tíma. Hún snerist um vísindarannsóknir, heilbrigðiskerfi og markað. Þarna vorum við Kári ekki á einu máli. Umræðan var á köflum..
8. Desember 2010
...Jóel A. þarf ekkert að undrast þótt þeir sem vildu pranga fyrri samningi inn á þjóðina í vankunnáttu sinni og undirlægjuhætti skuli nú reyna að telja okkur trú um að töfin hafi kostað okkur mikið. Þetta er ekki bara rugl heldur ámátlegur málflutningur og hvorki sæmandi fyrir Seðlabankann né Haskóla Íslands.
Grímur
8. Desember 2010
Í dag hafa þeir átt viðræður sín í milli í fjölmiðlum Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og Þórólfur Matthíasson, prófessor. Þeir eru sammaála um að öllu máli skipti að semja um Icesave strax og að drátturinn á samningum hafi kostað okkur gríðarlega fjármuni. Þetta er náttúrlega ekkert nýtt, nákvæmlega sömu ræðurnar og yfirlýsingarnar og í fyrra nema nú eru þeir kallaðir tossar sem voru og eru á öðru máli. Á daginn hefur hins vegar komið að tossarnir eru þeir sjálfir, Már og Þórólfur. Þeir reyndust hafa rangt fyrir sér alla leið. Eina sem ég bið nú um er að...
Jóel A.
6. Desember 2010
Samfylkingin hlustaði um helgina á niðurstöður umbótanefndar flokksins. Svo var að skilja að flokkurinn hefði gengið í gegnum hreinsunarelda gagnsæis og heiðarleika. Kannski nær að tala um meint gagnsæi og meintan heiðarleika. Jóhanna Sigurðardóttir, forætisráðherra, hefur nú lýst því yfir að hún hafi aldrei hótað afsögn eða að ríkisstjórnin myndi fara frá ef menn létu ekki af andstöðu við lausnina sem þá var boðið upp á í Icesave. Þetta snertir þig Ögmundur, sagðist þú ekki hafa farið úr ríkisstjórninni fyrir rúmu ári út af Icesave? Þú sagðist hafa verið að bjarga stjórrninni sem hafi hótað afsögn ef ekki allir fylgdu sömu línu í þessu máli. Ég man eftir öllum viðtölunum þar sem þú sagðir ...
Grímur
5. Desember 2010
Mótsögn nr. 1
Grundvöllur neyðarlaganna var og er að það hafi orðið forsendubrestur. Nú eru í uppsiglingu mikil málaferli vegna neyðarlaganna. Allt tal um "eftirgjöf" og "aðstoð" og "hjálp" við skuldara, í stað þess að taka undir málflutning HH um forsendubrest er vatn á myllu þeirra sem vilja hnekkja neyðarlögunum.
Mótsögn nr. 2
Bankarnir voru á sínum tíma harðlega gagnrýndir fyrir að veita 90% lán til húsnæðiskaupa. Menn töldu það fráleita áhættu. Nú segja menn að það sé ljómandi góð hugmynd að miða við 110% veðsetningu.
Mótsögn nr. 3...
Hreinn K
4. Desember 2010
Var að lesa niðurstöður ríkisstjórnarinnar vegna skuldavanda og í frammhaldi langar mig til að spyrja þig um eitt atriði sem mér sýnist að hafi gleymst en það eru þau heimili sem hafa staðið í skilum í gegnum síðustu tvö ár. Þessi heimili eru ansi mörg sem betur fer en þau hafa eins og önnur mátt þola hækkun á höfuðstól sinna skulda vegna óráðssíu bankamanna og annara sem komu að þeim málum á sínum tíma. Þess vegna spyr ég þig Ögmundur finnst þér það réttlátt að þessi heimili haldi áfram að borga af þessum bólgna höfuðstól á meðan að þeir sem fóru offari í skuldsetningu fá ...
Viðar Magnússon
3. Desember 2010

...Skorið verður ofan af lánum á yfirveðsettum heimilum með takmörkunum háðar tekjum og eignum en einnig verður vaxtakostnaður færður niður með sérstökum tilfærslum sem fjármálakerfið mun fjármagna. Samráð verður haft um útfærsluna. Þá er mikilvægt að samkomulag náðist við lífeyrissjóðina um að draga úr skerðingu sem hljótast af samspili almannatrygginga og lífeyrissjóða og síðast en ekki síst er nú unnið að því að losa okkur við vísitölutengingu lána sem ég sannfærist alltaf betur og betur um að verður að hverfa auk þess sem mál málanna á að vera lækkun vaxta.
Málamiðlunin sem nú hefur náðst er tvímælalaust mikilvæg ...
2. Desember 2010
Lýðræði í sókn-valdakerfi á undanhaldi! Ég vona innilega að þú hafir rétt fyrir þér. Samt leyfi ég mér að efast, vegna þess, að VG, flokkurinn sem vann sinn stærsta kosningasigur, í síðustu þingkosningum, virðist vera og er, alveg eins og allir hinir gömlu klíkuflokkarnir. Alla vega er mikill skortur á lýðræði þar inni, ekkert hlustað á grasrótina í flokknum, eða bara venjulegan flokksmann. Eiginlega skil ég ekki sjálfan mig, hversu blindur ég hef verið í áratugi, sem flokksmaður í VG og áður Alþýðubandalaginu, frá unglingsárum. Sama má segja um ríkisstjórnina...gerir ekkert í að breyta til! ...
Friðjón G.Steinarsson,
flóttamaður í Danmörku.
1. Desember 2010

... Þess vegna felum við fulltrúum á þingi að finna lýðræðislegum vilja okkar farveg. En eftir því sem það verður auðveldara af tæknilegum ástæðum að kjósa, mun þjóðin í sífellt ríkari mæli óska eftir að taka valdið milliliðalaust til sín. Það mun verða gert í öllum stórum hitamálum sem samfélagið glímir við, varðandi stórvirkjanir, auðlindir, einkavæðingu - einhverjir eru skelfingu lostnir yfir því að farið verðI að kjósa um fjárlög. Ekki deili ég þessum ótta. Hef reyndar ekki leyfi til þess, fremur en nokkur annar. Það sem drjúgur hluti þjóðarinnar vill að verði tekið til almennrar atkvæðagreiðslu verður að fara þá leið. Í umboði hvers eða hverra skyldu menn fá vald til að banna það?
Verkefnið framundan er að ...
1. Desember 2010
...Einhvern veginn svona hófst Silfur Egils á sunnudag: Nú er ég kominn með nokkra frambjóðendur til stjórnlagaþings, sagði Egill Helgason í þætti sínum, og hann bætti því við, að fólkið sem hann kynnti samviskulega
til sögunnar degi eftir kosningarnar, hefði ekki mátt sjást í gær, ekki í fyrradag, eða allt frá því það bauð sig fram til setu á stjórnlagaþingi. Úff. Hann sagði þetta afsakandi, þáttastjórnandinn, sennilega með óbragð í munni, af því hann hefur eins og við velt því fyrir sér hvernig átti að glæða áhuga manna fyrir persónukjöri á stjórnlagaþing....Í ljósi framlags nokkurra fýlupoka í fræðimannastétt og hjá ríkisútvarpinu, á áttatíu ára afmæli þeirrar stofnunar, voru kosningarnar stórfelldur sigur og þeim til sóma sem fóru á kjörstað. Óskandi er að kjörnir fulltrúar standi sig svo vel og skili svo góðu verki að ekki verði hægt að hunsa tillögurnar...
Ólína
27. Nóvember 2010
...Haldór Á, og Þorsteinn P, lögðu í eyði stóran flota af smábátum er þeir voru sjávarútvegsráðh. Hefði þessi floti fengið að vaxa í friði, væri mögulega allt annað dæmi í gangi á fiskimiðunum! Nóg vinna fyrir alla, og fiskimiðin gæfu þjóðinni margfaldan afla! Hvermig er staðan í dag, örfáir á ofurskipum, ryksuga og eyðileggja miðin, bolfiskaflinn, þorskur+karfi+ufsi+ýsa er kominn niður í 300.000 tonn. Hvað ætlar þjóðin að umbera þetta lengi, að örfáir nýti fiskimiðin og fari svona illa með þau!! Það eru allir fiskistofnar við Ísland að gefa þjóðinni lítið brot af þeim afla sem eðlilegt er! Komdu með ...
aagnarsson
27. Nóvember 2010

Í dag er kosið til Stjórnlagaþings. Mikill fjöldi kröftugra einstaklinga býður sig fram í kjörinu, konur og karlar, ungir og gamlir, þéttbýlisbúar og dreifbýlisbúar. Mikilvægt er að við tryggjum góða blöndu kvenna og karla, landsbyggðar og þéttbýlis, eins góðan kokteil og verða má. Mestu máli skipta að sjálfsögðu áherslur frambjóðenda. Vilja þeir lýðræði eða forræði, almannavald eða auðvald, sjálfstætt þing eða ósjálfstætt, auðlindir í almannaeign eða einkaeignarhald á orkulindum og sjávarfangi? Ekki velkist ég í vafa um hvað ræður mínu vali. Að mínu mati hefur vel verið staðið að...
25. Nóvember 2010
Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis hefur orðið stóri sannleikur á Íslandi eftir hrun. Ég vildi ég ætti túskilding fyrir hvert skipti sem stjórnmálamenn eða hagsmunahópar hafa bent á að þeirra hugmyndir séu einmitt í samræmi við það sem rannsóknarnefndin sagði. Í fyrstu taldi ég að skýrslan hefði svipað gildi fyrir íslenskt samfélag og ef þríeykið í nefndinni hefði komið með niðurstöðuna klappaða í stein beint frá almættinu. Skýrslan væri þá nokkurskonar boðorð sett fram til að bregðast við veikleikum okkar og til að halda okkur á beinu brautinni héðan í frá. En þegar stundir liðu fram kom í ljós að...
Árni V.
25. Nóvember 2010
...Þú sagðir í útvarpi nýlega að þú gætir ekki sem dómsmálaráðherra blandað þér í ákæruna gegn Nímenningunum, því málið væri fyrir dómstólum. Þetta er ekki alls kostar rétt. Samkvæmt 29. grein stjórnarskrárinnar getur forseti fellt niður saksókn, og samkvæmt Hæstaréttardómi 95/1946 er ekkert athugavert við það í sjálfu sér, og það gerist með því að ráðherra leggur til að forseti geri það. Ef saksóknari ákærði einhvern fyrir að drepa mann sem er á lífi væri óeðlilegt annað en að ráðherra beitti þessu valdi til að stöðva saksóknina. Samkvæmt ofangreindum Hæstaréttardómi þurfa aðstæður þó ekki að vera svo hrikalegar til að 29. greininni sé beitt. Nímenningarnir eru ákærðir fyrir brot á ...
Einar Steingrímsson
24. Nóvember 2010
Forseti, geimvera og ráðherra stóðu fyrir því að geimsteinn var nýlega lagður sem hornsteinn í leiguhúsnæði Háskólans í Reykjavík hf. í Nauthólsvík. Þetta var skemmtigerningur, mikið klappað. Daginn áður var loks sagt frá að eiganda hússins, eignarhaldsfélaginu, Fasteign ehf, biði nú loks þrotaupplausn. Umrætt skólahús hirðir Íslands- banki sér til eignar. Aðrar eignir og stórskuldir eignafélagsins munu víða dreifast, einkum til þrotasveitarfélaga. Hverfur þá enn eitt ljómandi vígi viðskiptasnilldar bólutímans, en þetta var hlaðið undir handleiðslu Glitnisgaura. Víst er að reiknaðar leiguskuldbindingar H.R. hf. vegna Nauthólsvíkurhúss, árlegur milljarður, yrðu rekstri H.R.hlutafélagsins ofviða. Til að lækka megi ...
24. Nóvember 2010
Ég sá í fjölmiðlum í dag að Þorgerður Katrín bar upp fyrirspurn til þín sem dómsmála- og mannréttindaráðherra um hvort þú vildir banna búrkur. Málatilbúnaðurinn er sérkennilegur svo ég fletti þessu upp áður en ég lagði trúnað á endursögn fjölmiðla. Eftir að ég fékk þetta staðfest fór tvennt gegnum hugann. Annað tengist því að seinna í þessari viku er kosið til stjórnlagaþings. Í allri umræðu sem því tengist er endurómað að þingið þurfi að standa í lappirnar gagnvart framkvæmdavaldinu. Að Alþingi þurfi að taka frumkvæði í að setja samfélaginu lög og reglur en láta það ekki ráðherrum eftir. Í miðri þeirri umræðu kemur alþingismaður sem spyr ráðherra af ...
Árni V
23. Nóvember 2010

Þegar ég sat í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, LSR, var reglulega rætt um vexti enda tekin um um það ákvörðun í stjórn hvaða vexti lán sjóðsins ættu að bera hverju sinni. Ekki voru menn alltaf sammála í þessu efni. Af minni hálfu var því sjónarmiði jafnan haldið á loft að okkur bæri að halda vaxtastiginu eins lágu og við treystum okkur til enda lífeyrissjóðurinn áhrifavaldur á fjármálamarkaði. Rökin voru þessi...Nú bregður svo við þegar kallað er til þjóðarátaks til að létta á skuldaklafanum að lífeyrissjóðirnir ganga fram fyrir skjöldu og segja að lækkun vaxta sé eignaupptaka sem stangist á við stjórnarskrá! Síðast heyrði ég Bjarna Þórðarson, tryggingastærðfræðing, hafa uppi svona boðskap í Spegli RÚV. Af þessum sökum...
23. Nóvember 2010

Baldur Þórhallsson er prófessor í stjórnmálafræði. Hann er líka varaþingmaður Samfylkingarinnar. Í þriðja lagi er Baldur andheitur stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það var gott hjá RÚV að geta fyrstu tveggja hlutverka Baldurs þegar hann var kynntur í upphafi viðtals í Speglinum í gærkvöld. Fyrir hlustendur sem ekki þekkja til hefði náttúrlega verið forvitnilegast að heyra um þriðja hlutverkið. Þannig hefðu þeir fengið botn í málflutning hans...
22. Nóvember 2010
...Enginn efast um fjárskort ríkisins í tengslum við brýna framkvæmdaþörf í fangelsismálum. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að Schengen sem og flestar aðrar tengingar við hið samevrópska reglufargan hafi orðið okkur til meiri ógæfu en ábata. Líklega skortir vilja og pólitískt þrek til að kippa því til baka en því væru áreiðanlega margir fylgjandi í dag. Ég hef lengi séð fyrir mér lausn til bráðabirgða í vistun meðfærilegra fanga. Vistheimilið Arnarholt á Kjalarnesi er næstum fullbúið húsnæði fyrir slíka starfsemi en það hefur staðið autt í líklega tvö ár. Hvers vegna eru ekki svona byggingar sem eru í opinberri eigu teknar í notkun svo leysa megi viðvarandi húsnæðisvanda ríkisins af ýmsum toga? Það eru margar ...
Árni Gunnarsson
21. Nóvember 2010

... Eins og sjá má skrifaði Magnús Hlynur frétt sína á meðan við vorum enn í ferðinni. En upplýst skal að við komumst á áfangastað þrátt fyrir ýmsar uppákomur á leiðinni sem ýmsir röktu til reimleika. Frá því er skemmst að segja að ferðin var fróðleg og stórskemmtileg enda leiðsögumaðurinn, Þór Vigfússon, meistari frásagnarlistarinnar, sumir myndu kalla hann töframann tungutaksins og að vel færi á því að fá slíkan galdramann til að fjalla um gernigar fyrr og nú. Þá var það sérstök tilfinning að sitja í gamla Weaponinum frá 1953 með sjálfan Guðmund Tyrfingsson undir stýri! Einnig hann er sagður...
20. Nóvember 2010
... Í tilefni af skrifum þínum um aðlögun / umsókn okkar að ESB þá langar mig að spyrja þig að því hvort ekki sé komin sá tími til að forusta VG fari að hlusta á þau áköll sem koma frá grasrót flokksins í ESB málinu? Hversu margir úr forustusveit VG á landsbyggðinni og víðar þurfa að hætta að starfa fyrir flokkinn eða segja sig úr honum til þess að flokksforusta VG leggi við hlustir, eða er ykkur alveg sama um skoðanir þessa fólks sem og meirihluta félagsmanna VG? Hvað kemur virkilega til að þið meðhöndlið lýðræðið með þessum hætti?
Rafn Gíslason
20. Nóvember 2010
...Sýna þarf fram á að þær heilbrigðisstofnanir sem á annað borð þurfa að sæta niðurskurði séu færar um það án skerðingar þjónustu og uppsagna starfsfólks með tilheyrandi afleiddum kostnaði." Þetta er mikilvæg hvatnig til ríkisstjórnarinnar og stuðningur við heilbrigðisráðherra ... hvetur flokksráðið „ til þess að svo fljótt sem unnt er verði í viðræðuferlinu látið reyna á meginhagsmuni Íslands eins og þeim er lýst í samþykkt Alþingis." Þetta er í anda þess sem ég hef talað fyrir, að flýta ferlinu, láta reyna á meginálitamálin, yfirráð yfir sjávarauðlindinni, landbúnaði og grunnatriðum í sjálfsákvörðunarrétti. Þennan skilning má lesa út úr framantilvitnuðu auk þess sem talað er um að stöðva aðlögunarferlið og fjárframlög til að smyrja samningsferlið og þar með viljann til aðlögunar...
19. Nóvember 2010

...Í gær efndi Reykjavíkurfélag VG til opins málþings um heilbrigðisþjónustuna....Í opnum umræðum í kjölfar framsöguerinda kom fram að fulltrúi VG í fjárlaganefnd Ásmundur Einar Daðasaon hefði einmitt óskað eftir slíku mati og var gerður að því góður rómur. Í máli Þuríðar Backman, foranmns heilbnrigðisnefndar Alþingis kom fram að fulltrúar VG hefðu þar beitt sér fyrir því að sá hluti fjárlaga sem sneri að heilbrigiðsstofnunum yrði endurskoðaður ...Við sem stöndum að stjórnarmeirihlutanum þurfum að vera meðvituð um ábyrgð okkar. Þá dugir ekki annað en horfa til allra útgjaldaþátta. Ég held að það sé engin tilviljun að nú fá hljómgrunn með þjóðinni hugmyndir um að flýta viðræðum við ESB ...
18. Nóvember 2010

...Nú stíga fram á sjónarsviðið einstaklingar og tala digurbarkalega um að betra hefði verið að borga Icesave upp í topp strax og afnema gjaldeyrishöft strax. Þá væru matsfyrirtækin ánægð, líka fjárfestar og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Allir ánægðir. Fréttamenn og prófessorar ánægðir. Einfalt mál. Þangað til þeir missa sjálfir vinnuna í niðurskurðinum. Og síðan er það skrítið að gefa sér að gjaldeyrishöftin hefðu horfið um leið og íslenskir skattgreiðendur gengju í ábyrgð fyrir Icesave. Skilja menn virkilega ekki að skuldsetning ríkisins er höfuðvandi okkar? Mér finnst þetta tal vera sjálfsblekkingar ótrúlega áþekkar og við heyrðum 2007 þegar menn trúðu því að með tilfæringum í bókfærlsu væri hægt að...
17. Nóvember 2010

...Augljóst er að við verðum að stokka þessi mál upp og fá botn í hvert við raunverulega erum að halda. Eitt er að vera sammála um að vera ósammála um ESB nema það eitt að þjóðin eigi að fá í hendur niðurstöðu samningaviðræðna um helstu álitamálin og síðan greiða um hana atkvæði. Nú eru samningamenn Íslands farnir að reisa kröfur á hendur öðrum ríkisstjórnarflokknum um að hann breyti grundvallarafstöðu sinni til ESB. Flokkurinn verði að skuldbinda sig til að styðja inngöngu í ESB ef Þorsteinn Pálsson og félagar komast að niðurstöðu við samningaborð! Í umræddu viðtali í Speglinum kom fram að Þorsteinn Pálsson væri þess fýsandi að...
16. Nóvember 2010
...Í annan stað er það rétt hjá Styrmi Gunnarssyni að ég hef áhyggjur af deilum innan VG um ESB málin. Ég er í hópi þeirra sem studdu og styðja það að niðurstaða verði fengin í viðræðum við ESB um þau álitamál sem margir Íslendingar segja að ráði úrslitum um hvort þeir samþykki eða hafni inngöngu í ESB. Innan VG er almenn andstaða gegn inngöngu og samþykktir flokksins ganga í þá átt. Þeir eru einnig margir sem voru mjög gagnrýnir á afstöðu okkar sem samþykktum að ganga til samningaviðræðna við ESB. Það er ekkert óeðlilegt eða annarlegt þótt reynt sé að finna leiðir til að sætta fylkingar. Í þriðja lagi er það fullkomlega eðlilegt, málefnalegt og að mínum dómi skynsamlegt að flýta þessu ferli sem kostar okkur gríðarlega fjármuni og rífur þjóðina nánast á hol í stöðugum ...
15. Nóvember 2010
Mikið þykir mér vænt um hvernig þú vilt tækla framhaldsaðgerðir varðandi EB aðild, helst vildi ég sjá þig sópa henni út af borðinu. Þó að Össur hafi haldið því fram að við héldum fullu forræði yfir okkar landhelgi, þá stendur í samþykktum EB ríkja að sameiginleg nýting fiskistofna aðildarríkja skuli ákvörðuð í Brussel og frá því séu engin vikmörk, og hana nú. Er frekar rólegur á meðan Jón situr þar sem hann er og fagna jafnframt nýúthlutuðum byggðarkvóta frá hans ráðuneyti...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
15. Nóvember 2010

...Þegar ég nú viðra þá skoðun að flýta beri viðræðum við ESB og fá niðurstöður í stóru álitamálin þá er þessu mætt með fullkomnum þvergirðingshætti í Brussel eins og framangreind ummæli sýna. Ég ætla ekki að kalla þetta hroka vegna þess að þetta er eflaust ekki illa meint. Þetta eru einfaldlega viðbrögð steinrunnins kerfis. Steingervingum kerfismennskunnar finnst allt erfitt, óyfirstíganlegt, ógerlegt. Steingervingarnir eru líka til hér á landi. Frá þeim heyrist lítið þegar skera á niður framlög til heilbrigðiskerfisins til að brúa fjárlagahallann. Það er væntanlega samkvæmt lögmálinu. En að leyfa sér að ræða breytt vinnuferli gagnvart ESB - það er út í hött! Ríkisstjórnin hefur alla tíð ...
14. Nóvember 2010
Birtist í Morgunblaðinu 13.11.10

Ég hitti nokkra félaga mína úr verkalýðshreyfingunni nýlega, hýra og glaða í bragði, enda nýkomnir úr samkvæmi þar sem samningamenn Íslands við ESB höfðu verið að „hrista sig saman". Ég spurði hvort þeir ætluðu ekki að haska þessu af, verkið væri í reynd ósköp einfalt, snérist um að kortleggja ágreininginn við ESB um auðlindamál, hvort við gætum samið um deilistofna eða yrðum undirseld ákvörðunum í Brussel, hvort við gætum rekið landbúnað á okkar eigin forsendum, hvort við sem ESB ríki kæmumst upp með sömu fyrirvara í lögum um þjónustuviðskipti og við gátum sett sem EES ríki í þjónustutilskipunina vorið 2009...
13. Nóvember 2010
Í tilefni af bloggi Hilmars Þórs á eyjunni.is, "Arkitektúr, skipulag og staðarprýði", sem 5.11.2010 hefur að geyma pistilinn "Danir teikna fangelsi á Hólmsheiði" langar mig til að forvitnast hjá þér, sem Dómsmálaráðherra hvort ykkur sé fúlasta alvara með þetta verklag í þínu ráðuneyti? Í ljósi ömurlegs ástands hjá okkur íslenskum arkitektum, sem lepjum nú dauðann úr skel, vona ég að þú vindir sem bráðlegast ofan af þessu danska rugli. En sé ykkur alvara með það, að láta danska arkitekta teikna eitt stykki 3.600 fm. djeilhás, svo sem fram kemur í pistli Hilmars, þá sýnist mér það einsýnt að hreinlegast sé þá að ganga alla leið og fá hingað Margrethe Thorhilde sem drottningu og reyndar stjórnsýslu alla og allar opinberar stofnanir með mönnum og músum danskar, í stíl Trampe greifa og kompagni. Þá gætum við báðir ...
Pétur Örn Björnsson
13. Nóvember 2010
Ávarp á Kirkjuþingi í Grensáskirkju

...Stofnanir samfélagsins eiga allt sitt undir sátt í samfélaginu. Styrkur þeirra byggist á samkennd og sameiginlegri siðferðisvitund. Það gildir um Alþingi, um dómstóla um viðskipti hvers konar og það gildir líka um kirkjuna. Og þegar sáttin týnist og siðferðið glatast, riða allar stofnanir til falls. Þegar köllin glymja: Breytið steinum í brauð, svo allir ærast af hávaða, þá bresta hin þykkustu tré. Fáir heyra í þeim sem segir: Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. En nú eru nýir tímar að ganga í garð. Átrúnaðurinn á...
11. Nóvember 2010
Sælir veri lesendur. Mig langar að benda á vissa skekkju þegar að fréttamenn fræðimenn, hagfræðingar og jafnvel stjórnmálamenn eru að ræða um svokallaðan kostnað á leiðréttingum. Sem eru í raun skil á þýfi en ekki löglegur hagnaður. Og svo þegar verið er að tala um þennan "kostnað", þá eru þetta upphæðir sem dreifist á 40 ár í tilfelli Íbúðalánasjóðs. Réttara væri að tala um skerðingu á árlegu tekjustreymi til Íbúðalánasjóðs um 1750 miljónir á ári næstu fjörtíu ár. Skrifað ...
Vilhjálmur Árnason
11. Nóvember 2010
...Þar sem þú ert nú orðinn mannréttindaráðherra má ég til með að minna þig á að grundvallar mannréttindi eru meðal annars falin í því að þegnarnir hafi þak yfir höfuðið og salt í grautinn. Ég treysti því að þú hafir kjark til þess að halda á lofti kröfum "Sigtúnshópsins" að lífeyrissj., bankastofn. og ÍLS skili aftur ofteknum "tekjum" til grandalausra skuldara. Hvar væru lánveitendur staddir ef ekki væru lánþegar? Aðal brandarinn er að ...
Sigurður Helgi Guðmundsson
11. Nóvember 2010
Ögmundur, margir treystu því að þú mundir gera eitthvað í sambandi við að banna spilakassa hér á landi. En þú vannst kannski eitthvað í því og svo hvað búið spil, ég túlka að þú hafir kannski fengið eitthvað undir borðið fyrir að þegja, sjáðu Össur gefur Árna gott orð hvað er að? Ef einhver getur gert eitthvað til þess að hjálpa spilafíklum, og sjáðu krakkana vaxa úr grasi í dag. Kannski þú, sjáðu í Englandi held ég að þú verðir að vera ...
jónbjörn
11. Nóvember 2010

...Að mínum dómi þarf að afnema vísitölubindingu lána. Enda þótt greiðslubyrði vísitölubundinna lána sé ekki eins þung framan af og óvísitölubundinna lána (því verðbólguþátturinn er tekinn að láni og færður yfir á höfðustólinn) þá verður lánið dýrara þegar upp er staðið. Í kreppu er vísitölubinding stórhættuleg, því á meðan allar efnahagsstærðir eru rýrðar...er fjármagnið varið. Þegar síðan ofan á verðbæturnar kemur drjúg vaxtaprósenta þýðir þetta flutning á verðmætum frá heimilum og atvinnurekstri til fjármálastofnana...Þar til vísitölubinding verður afnumin ber að setja tveggja prósenta þak á vexti vísitölubundinna lána. Það væri eins skynsamlegt nú og það hefði verið fyrir þrjátíu árum þegar þáverandi seðlabankastjóri talaði fyrir því.
8. Nóvember 2010

...Skemmst er frá því að segja að Íslendingarnir voru fyrstir hjálaparsveita á vettvang. Margt var áhrifaríkt í heimildarmyndinni. Þegar stúlkunni var bjargað lifandi úr rústum og móðir hennar hné niður yfirkomin af geðshræringu, verður ógleymanlegt svo og þakkirnar sem Íslendingarnir fengu fyrir sitt óeigingjarna starf. Þetta held ég að hafi fyllt okkur öll stolti yfir hetjudáðum landa okkar....
7. Nóvember 2010

...Efnt var til mikillar hátíðar á Raufarhöfn að athöfn lokinni. Vegamálastjóri ávarpaði samkomuna að venju. Það gerði ég einnig sem samgönguráðherra, Steingrímur J. Sigfússon sem fjármálaráðherra og sem þingmaður kjördæmisins flutti hann kveðju annarra þingmanna. Forveri minn Kristján Möller ávarpaði einnig samkomuna svo og sveitarstjórnarmenn og flutt var skemmtiefni - stórgott! Umbætur í samgöngumálum eru fólki sem búið hefur við slakar samgöngur mikið fagnaðarefni og er skemmtilegt að verða vitni að því hvernig hátíðahöldin blandast jafnan sögunni og lifandi menningu samtímans. Þar lætur Vegagerðin ekki sitt eftir liggja og á hún og...
6. Nóvember 2010
.. Í Skólaljóðunum gömlu, góðu er að finna einstakar perlur, sem a.m.k. við fyrstu sýn uppfylla ekki skilyrðin um guðleysi í skólum, Þjóðsöngurinn hlýtur að þurfa að víkja "Ó Guð vors lands...." Lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar, Ísland er land þitt, sem stundum hefur verið nefnt þjóðsöngur númer tvö gengur ekki heldur "Ísland sé falið þér eilífi faðir, Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf" Hver á sér fegra föðurland eftir Huldu. Þar segir "...geym Drottinn, okkar dýra land er duna jarðarstríð " Erla góða Erla, Stefáns frá Hvítadal á vart upp á pallborðið "Dýrðlega þig dreymi og Drottinn blessi þig" Góða tungl eftir Steingrím Thorsteinsson er heldur ekki guðlaust "Og sem vinhýr vörður manna, Vitna þú um drottins ást" Ísland ögrum skorið "fyrir skikkan skaparans; vertu blessað, blessi þig, blessað nafnið hans" .Þetta er...
Guðrún Sæmundsdóttir
4. Nóvember 2010
Ágæti Ögmundur, Þú spyrð margra góðra spurninga um kröfuna um utanþingsstjórn. Mjög góðar og gildar. En hefurðu velt fyrir þér ábyrgð þinni í óróleikanum sem stendur þessa dagana? Með hegðun þinni varðandi Icesave, með hegðun þinni í sumar og tilvísunum í það að hægt sé að gera eitthvað til að létta skuldabyrðar fólks? Sem í raun er ekki hægt. Þetta hafði tvær afleiðingar sem enn ekki sér fyrir endann á: 1) Fólk hélt að það fengi aflétt skuldum og heimtar nú skuldaskil. 2) þetta kom blóðbragði í munn stjórnarandstöðunnar sem hefur heldur betur eflst undanfarna mánuði. Ég segi bara, ábyrgð þín er mikil. En ég hef það ...
Hannes
4. Nóvember 2010
Hvernig stendur á því að Alþingismenn hafa ekki enn afnumið lifeyrislögin illræmdu? Þetta var eitt af því sem ég var viss um að vinstri stjórn myndi umsvifalaust, um leið og hún kæmist til valda. Þetta hleypir illu blóði í alþýðu manna - og er þó mörg mæðan fyrir, eins og þú veist. Hver er skýringin?...
Guðrún Ægisdóttir
3. Nóvember 2010
Birtist í Morgunblaðinu 02.11.10.

Alltaf er gott til þess að vita þegar manni berast fregnir um að gamlir samstarfsmenn eldist vel. Fyrir skemmstu skrifaði Halldór Blöndal, fyrrum forseti Alþingis, grein í þetta blað sem sannfærði mig um að hann væri enn sjálfum sér líkur. Grein Halldórs hét "Mannréttindaráðherrann og Jón Grindvíkingur" og var hugmyndin sú að greinin fjallaði um mig og afstöðu mína til fjárlagafrumvarpsins. Við nánari skoðun mátti skilja að hún fjallaði líka um atvinnustefnu Sjálfstæðisflokksins. Þannig var, að félagar Halldórs á þingi höfðu fundið upp á því snjallræði að spyrja mig út úr um tilteknar forsendur fjárlaganna. Ef ég efaðist um einhver atriði þar, mætti gera því skóna að ekki stæði steinn yfir steini í gervöllu frumvarpinu. Þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Einar K. Guðfinnsson léku sitt hlutverk með prýði í þinginu en síðan kom sjálfur guðfaðirinn með...
2. Nóvember 2010
Þau annað hvort skópu hrunið eða aðhyllast hugmyndafræði sem býr til hrun. Þau eru Sjálfstæðisflokkurinn. Íhaldsáratugirnir einkennust af því, meðal annars, að dytti framkvæmdastjórum VSÍ eða Verzlunarráðsins eitthvað í hug á leið sinni til vinnu, þá var hugdettan orðið að lagafrumvarpi seinna í sömu viku og samþykkt sem lög frá Alþingi á sama þingi. Íhaldsáratugirnir einkenndust af því að þegar Samtök iðnaðarins, Vinnuveitendasambandið, Verzlunarráðið, Landsamband útvegamanna, heildsalafélagið eða hinn pólitíski armur samtakanna fimm, Sjáfstæðisflokkurinn, komu saman á ráðstefnu, þá urðu niðurstöðurnar undantekningalaust að lagafrumvarpi. Gilti þá einu hvort samþykktir væru skynsamlegar eða arfavitlausar. Hér liggur veikleiki Sjálfstæðisflokksins sem er að hann er ekki hefðbundinn stjórnmálaflokkur eins og ...Þau beita Morgunblaðinu, ÍNN, Fréttablaðinu og öllum örðum fjölmiðlum sem þau ráða yfir í þessari baráttu sinni. Þau verða að vera í stjórn. Þau verða að ráða ...
Jóna Guðrún
2. Nóvember 2010
Ég eins og fleri horfðum á heimildarþátt sjónvarspins í fyrrakvöld (sunnudag) um stolnu rúðurnar frá Coventry kirkju sem eru þeim jafn mikil þjóðargersemi eins og handritin gömlu eru okkur. Þessar rúður eru í Akureyrarkirkju og Áskirkju m.a. og eru tvær geymdar í geymslu í Áskirkju og ekki einu sinni notaðar. Mig sveið í hjartað við að horfa á sinnuleysi okkar. Af hverju erum við ekki búin að skila þessu þýfi? Auðmýktin frá ...
Björg F. Elíasdóttir
1. Nóvember 2010
...Þetta datt mér í hug eftir að hafa hlustað á fulltrúa fjórflokksins og stjórnmálafræðiprófessor fjalla um þing og þjóð í ríkissjónvarpinu í gærkvöldi....Annar fyrrverandi sendiherra, Þorsteinn Pálsson, lýsti mjög eftir forystusauðum til að leiða lýðinn og sagði samfélagslegan vanda felast meðal annars í að lýðurinn leiddi forystusauðina,...og Valgerður Sverrisdóttir kenndi fjölmiðlum um ástandið ... Stjórnmálafræðiprófessorinn lýsti ástandinu hér eins og ástandinu á Sikiley. Eftir sat ég hálf lömuð. Ekki vegna myndarinnar sem upp var dregin því hana sé ég daglega heldur vegna þess á hvaða plani umræðan reyndist vera. Ætli það, hin grunna lýsing þess sem allir sjá, sé nú ekki megin ástæðan fyrir því hvernig komið er, að stjórnmálamenn og fræðingar geta flestir bara lýst umhverfi sínu, og ekki skýrt það sem gerist, og að sá veikleiki ...
Ólína
1. Nóvember 2010
Mikið er gott að heyra að sá flokkur sem ég hef kosið undarfarnar kosningar sé loksins farinn að sjá að það þurfi að taka á skuldamálum heimilanna svona almennt. Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna eru komnir á stjá til að tilkynna okkur um þá skerðingu sem við verðum fyrir ef að við fáum til baka það sem stolið var af okkur í hruninu sem að allavega hluti lífeyrissjóðanna tók þátt í. Á mínu heimili þá hækkaði höfuðstóll lánanna um 3 miljónir umfram meðaltal áranna á undan og ég vil vita hvort ég eigi bara að greiða þetta með bros á vör á sama tíma og Halldór Ásgrímsson fær felldar niður skuldir uppá 2.700 miljónir og ...
Viðar Magnússon
31. Október 2010
Ég hef undanfarnar alþingis- og bæjarstjórnarkosningar kosið V-G, vegna þess að ég taldi áherslur hreyfingarinnar falla að mínum hugsjónum. Undanfarið hefur þó lítið af verkum forystumanna(kvenna) V-G fallið að mínum hugsjónum og ber þá að nefna aðgerðarleysi V-G í aðildarferli að ESB. En svo eru það einnig siðferðisleg sjónarmið hreyfingarinnar sem valda mér gríðarlegum vonbrigðum. Hvernig má það vera að V-G skuli telja dreifingu Gideonfélagsins á Nýja Testamentinu í grunnskólum brot á mannréttindum? Hvernig má það vera að menntamálaráðherra beiti sér gegn ...
Guðrún Sæmundsdóttir
31. Október 2010
Hjartanlega sammála því að við verðum að "þola" þau stjórnvöldum sem eru lýðræðislega kjörin. Ég kaus ekki þessi ríkisstjórn né þessa flokka en ber virðingu fyrir umboði þeirra. Meðan lýðræðislega fulltrúar þjóðarinnar geta leyst það verkefni að búa til ríkisstjórn með þingmeirihluta þá stjórnar hann, annað væri ólýðræðislegt. Lýðræði götunanr er ...
Sveinn V. Ólafsson
31. Október 2010

... En staðreyndin er nú samt sú að þetta gera stjórnmálamenn oft - og eftir því sem losnar um forrræðishyggjuna og mönnum verða tamari lýðræðisleg vinnubrögð, þá gerist þetta oftar. Krafa um utanþingsstjórn er hins vegar ákall um forræðishyggju. En hverja skyldu menn vilja fá að stjórnvelinum? Bara einhverja sem forsetanum dettur í hug? Viljum við ekki frekar fá að velja fólkið sjálf í kosningum? Á þetta að vera fólk sem vill einkavæðingu eða er á móti henni, á þetta að vera fólk sem styður kvótakerfið eða vill uppræta það, er með stóriðjustefnu og vill selja auðlindirnar, eða vill ...
31. Október 2010
Birtist í Bændablaðinu 21.10.10

...Ég held að menn hafi gert of mikið af því að ná fram breytingum innan stjórnsýslunnar með fyrirmælum og lagaboðum. Það er mun vænlegra til árangurs að fólk geri hlutina af fúsum og frjálsum vilja. Ég deili því almenna markmiði með forvera mínum að það sé æskilegt að styrkja sveitarfélögin sem stjórnsýslueiningar og það felur í sér að þau sameinist í ríkara mæli en verið hefur. Þau eiga hins vegar að vera sjálfráð um það. Það er kjarni minnar stefnu og míns flokks, að leggja áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð...
29. Október 2010

...Ekki hef ég nokkrar ástæður til að ætla annað en allt sem fram fer hjá Byggðastofnun þoli dagsljósið. En hvers vegna skyldi þá krafa Arndísar Soffíu Sigurðardóttur, varþingmanns VG sem sæti á í stjórn Byggðastofnunar, eiga erfitt uppdráttar? Að mínu mati er krafa hennar um opna stjórnsýlsu fullkomlega réttmæt og eðlileg. Tillaga hennar er þessi samkvæmt frétt á smugan.is: „
Fundargerðir stjórnar Byggðastofnunar skulu gerðar opinberar til hins ítrasta og að því marki sem lög leyfa hverju sinni." Arndís Soffía vill reyndar ganga skrefinu lengra og...
29. Október 2010
...Þá þarf að taka innheimulögin í gegn en þau tryggja lagagrundvöll til að okra á smákröfum. Nú spretta upp fjölmörg fyrirtæki sem gera út á að okra á reikningum frá fyrirtækjum í fákeppnisiðnaði. Eða gabba sveitarfélög í viðskipti. Þannig er fullkomlega löglegt að bæta 8700 kr ofan á 2000 kr kröfu eins og innheimtufyrirtækinu sýnist. Svo má senda kröfuna eftir það til lögfræðings og rukka 15.000 kr. Að auki vexti af öllum kostnaði ( sjálfdæmi). Þá stendur krafan í 33.000. kr. Má því segja að þetta sé eini nýsköpunariðnaðurinn sem ríkisstjórnin styður dyggilega, að vísu ekki með ...
Einar Guðjónsson
27. Október 2010
það ber að þakka það sem vel er gert og lýsi ég ánægju minni með frumvarpi um fyrningu gjaldþrota skulda. þetta er svo sannarlega skref í rétta átt, en þó þarf að hafa það í huga að hér er verið að tala um 2 ár eftir að skiptum er lokið, ég var orðinn fjárhagslega stopp í lok árs 1998, lýstur gjaldþrota 2001 skiptum lauk ekki fyrr en 2006 ( í rauninni fáránlegt hvað þetta tók langan tíma miðað við það að allan þennan tíma var ég bæði eignalaus og atvinnulaus) - ef hlutirnir eru ...
Steinar Immanúel Sörensson, stofufangi í íslensku samfélagi vegna gjaldþrots sem á rætur að rekja til þekkingarleysis. ( ábyrgðin að öllu leyti mín.) En á mér þann draum að verða nýtur samfélagsþegn með tíð og tíma.
27. Október 2010

Fjölmiðlar og bloggsíður hafa talsvert fjallað um fund sem baráttusamtökin BÓT efndu til í Salnum í Kópavogi í gær. Þar á meðal er að finna umfjöllun á
pressan.is. Þar kom fram að ég telji að göt hafi verið rifin á öryggisnet velferðarkerfisins sem í samdrættinum séu að koma æ betur í ljós og að það sé höfuðkrafa á hendur stjórnvöldum að stoppa upp í þessi göt. Nú bregður svo við að varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Óli Björn Kárason, vaknar til lífsins og sakar mig um ósannindi á vefmiðlinum
amx.is. Þar hafði reyndar einnig birst ...
27. Október 2010

Vímuvarnarvika var opnuð með viðhöfn í Þjóðleikhúsinu í gær, þar sem saman voru komnir fulltrúar fjölmargra samtaka og stofnana sem beita sér fyrir forvörnum. Í framhaldinu var leikritið Hvað ef? frumsýnt í Kassanum. Leikstjóri er Gunnar Sigurðsson en leikendur eru þrír talsins: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Ólöf Jara Skagfjörð og Ævar Þór Benediktsson. Leikritið er ætlað unglingum og fjallar um skaðsemi vímuefnaneyslu og áhugaverðan og frjóan hátt. Með verkinu er ungt fólk hvatt til að spyrja sjálft sig: Hvað ef? Þar með er sú hugsun vakin að við ....
24. Október 2010

... Eitt augnablik fannst mér Benedikt hljóta að vera frá Borg á Mýrum. Kannski frændi Egils? Varla bróðir. Það er svo langt um liðið. Eða hvað? Allt er þetta farið að renna saman, fortíð og samtíð í höndum þessara óborganlegu listamanna sem eru að hefja Borgarbyggð upp í efstu hæðir. Það sem upp úr stendur í mínum huga eftir þessa heimsókn er hve lítið maður hefur um þetta vitað. Bernd Ogrodnik er greinilega listamaður á heimsmælikvarða - tvímælalaust í allra fresmtu röð í krefjandi listgrein. Eitt er víst að oft eigum við sem þarna komum eftir að leggja leið okkar í Brúðuheima og ...
22. Október 2010
Landeyjarhöfn: Kosnaðarsöm dæling ! Vil minna á að Landsvirkjun dældi gríðar miklu efni úr Bjarnarlóni og síðar var fráskurður Búrfellsvirkjunar II grafinn með sama pramma. Þúsundir rúmm. Virkjunin hefur ekki verið tekin í notkun. Prammin og dælur hans voru knúnar með rafmagni. Verðugt verkefni að smíða eða breyta dæluskipi og nota íslenska orku til að dæla úr höfninni. Ef til vill er líka hægt að selja sandinn úr landi.
Guðjón Hreiðar Árnason
22. Október 2010
...Myndin vakti mig til umhugsunar um veruleika sem ég hafði hugboð um en er mér nálægari eftir að sjá þessa mynd. Sögusviðið var í Bandaríkjunum og Mexíkó. Að sögn er verslun með líffæri að færast í aukana. Við þurfum að halda vöku okkar. Sums staðar er mikið af líffærum og lítið af peningum. Annars staðar er lítið af líffærum og mikið af peningum. Þarna skapast viðskiptatækifæri. Eða hvað? INHALE vekur áleitna spurnnigu...
21. Október 2010
Ég tek hjartanlega undir með Jóel A. Það á að samþykkja fyrningarfrumvarpið með hraði. Þið hafið ekki leyfi til að tefja málið! Sá sem tefur þetta mál veit ekki hvað gjaldþrot er!!!
Sunna Sara
21. Október 2010
...Ég starfa í fjármálageiranum og þekki mjög vel til þessara mála enda á degi hverjum að aðstoða fólk á barmi gjaldþrots. Ég veit og skil að þetta frumvarp er gríðarlega gott og ótrúlegt hve langt er gengið skuldurum í hag! Ég bjóst við efasemdum Íhaldsins en ekki frá þingmönnum sem gefa sig út fyrir að standa með skuldugu fólki. Talsmaður Hreyfingarinnar sagði frumvarpið ónýtt!!!! Ætlar þetta fólk að leggja stein í götu þeirra sem nú eru að fá réttarbót? Bara vegna þess að það skilur ekki gangverkið í þessum málum? Eða telur sig þurfa vera á móti. Ömurlegt! Ég sá og heyrði að nú ætla menn að leggjast í miklar tafir á málinu. Alþingi hefur ekki leyfi til að stöðva þessa réttarbót. Afgreiðið frumvarpið strax!
Jóel A.
21. Október 2010
Mikið var og hafðu þökk fyrir! Íslensku gjaldþrotalögin eru smánarblettur á lagasafni þjóðarinnar. Lögin gera einstaklingum ókleift að byrja upp á nýtt, einstaklingum sem til dæmis hafa vegna veikinda eða af ástæðum sem þeir réðu engu um, misst atvinnu sína, ævisparnað og fjárfestingar og sem (vegna glórulausrar peningastjórnar landsins) eiga oft minna í heimilum sínum en þeir skulda. Þessir einstaklingar losna aldrei undan skuldabyrðum sínum. Þessi skuldaþrældómur er þjóðarskömm. Hlutafélög í eigu fjárglæpamanna ganga frá milljarðaskuldum (þeim sem þeir ekki fá afskrifaðar í bönkunum) eins og ekkert sé og byrja næsta dag með nýja kennitölu, en venjulegt fólk fær aldrei tækifæri til að byrja upp á nýtt. Eina lausnin er að ....
Íris Erlingsdóttir
21. Október 2010
Birtist í Fréttablaðinu 20.10.10.

...Staðan er semsé þessi: Óskum hefur verið beint til fjármálastofnana um að þær taki þátt í almennum aðgerðum. Viðbrögðin hafa verið dræm en endanleg svör liggja ekki fyrir. Millileiðir hafa hins vegar verið orðaðar. Allt tal um svikin loforð eða leikarskap af hálfu stjórnvalda er því ósatt. Það sem meira er, þetta er ósanngjarnt og óábyrgt tal.
Það er af mikilli alvöru verið að leita lausna og að mínu mati er það beinlínis ábyrgðarhluti að reyna að grafa undan slíkri viðleitni. Staða mála á Íslandi er alvarlegri en svo að menn geti leyft sér slíkt. Auðvitað skrifar Þorsteinn Pálsson eins og hann lystir og Fréttablaðið velur sér þá fréttaskýrendur sem það vill bjóða lesendum sínum upp á. Ég ætla hins vegar að leyfa mér að óska eftir...
20. Október 2010
Mikið ósköp værir þú nánast hinn fullkomni stjórnmálamaður ef þú gætir endurmetið örlítið afstöðu þína til álversins í Helguvík. Slíkt skref myndi enda vera öflugt innlegg í þína stöðu sem vonandi verðandi formaður VG. Þú verður og munt vonandi fara í þann slag sem ljóslega hefur verið boðaður innan tíðar og sjá muntu að þar mun ótvíræðu brautargengi verða veitt. Ég vildi aukinheldur sjá þig taka af öll tvímæli varðandi umsóknaraðildina frægu og yfirlýsa að þangað inn hefðum við ekkert að gera, en þetta er nú bara minn óskalisti. Boðaðar hugmyndir Jóns Bjarnasonar með auknar aflaheimildir í bolfiski sem seldar verða á markaði eru hrein snilld enda ...
Kveðja, Óskar K. Guðmundsson, fisksali.
19. Október 2010

...Gjaldþrotalögin eru nú á þann veg að hægt er að rjúfa fyrningu krafna út í hið óendanlega. Þetta hefur valdið því að hýenur í lægsta lagi innheimtumanna - þeirra sem hafa viðurværi af því að kaupa skuldakröfur á hendur fjárvana fólki og fyrirtækjum og gera sér mat úr þeim, hafa haft nánast ótakmarkað athafnarými. Á Alþingi hófst í fyrra barátta fyrir því að fá þessu breytt. Þar fór í fararbroddi Lilja Mósesdóttir og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ásmundur Einar Daðason...Eitt fyrsta verk mitt í Mannréttindaráðuneytinu var að fela embættismönnum að útbúa frumvarp í þeim anda sem þarna var flutt og var það afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Í frumvarpinu sem nú er orðið stjórnarfrumvarp og fer fyrir þingið í vikunni, er gert ráð fyrir að ...
18. Október 2010
Ég er hoppandi ánægður með að þú ætlar ekki að láta húskarla ráðuneytisins vaða áfram án þess að hafa þig upplýstan en þessi vinna var nánast fullmótuð í tíð fyrri ráðherra. Þetta hefur alla tíð loðað við ráðuneytin að stjórarnir eru of margir og æða áfram nánast stjórnlaust. Mál Björgvins Sigurðssonar er mér í fersku minni. Hvar var ráðuneytisstjórinn hans, allir skrifstofustjórarnir og aðstoðarmaðurinn?? aðstoðarmaðurinn?? Þeir vissu um hvað var á seyði en létu yfirmann sinn ekki vita. Svona ...
Þór Gunnlaugsson
18. Október 2010

Liu Xiaobo, handhafi friðarverðlauna Nóbels, situr í fangelsi í heimalandi sínu Kína. Hann er samviskufangi. Þúsundir og hundruð þúsunda sitja í fangelsi vegna skoðana sinna í Kína og víðs vegar um heiminn. Heimsbyggðin hefur staðnæmst við nafn Nóbelsverðlaunahafans því það er táknrænt fyrir alla hina sem grundvallarmannréttindi eru brotin á. Krafa um að leysa Liu Xiaobo úr haldi er því krafa um að mannréttindi séu virt. Skilaboðin til kínverskra stjórnvalda eru skýr...
17. Október 2010

Sem formaður BSRB þurfti ég oft að fást við afleiðingar slakra vinnubragða innan stjórnsýslunnar. Það var ekki síst þegar ráðist var í vanhugsaðar breytingar sem ekki höfðu verið hugsaðar til enda. Í stað þess að gefa sér góðan tíma og ræða sig til niðurstöðu var ætt af stað; leiðsögumennirnir oft utanaðkomandi menn með formúlurnar á hreinu en þekkingarsnauðir um sjálfa starfsemina. Ég lærði þá að forðast bæri vinnubrögð af þessu tagi. Þess vegna brá mér við fréttir RÚV í dag þar sem sagt var frá skipulagsbreytingum innan lögreglunnar, sem fréttastofan hafði „heimildir um." Fyrir mig voru þetta hins vegar ...
17. Október 2010

...Við vorum sammála um það,ég og vegamálastjóri, að fá forvera okkar til að raða sér á borðann við þessa athöfn ásamt okkur, til að undirstrika hve margir hefðu komið að þessu verki úr stjórnmálunum og frá framkvæmdahliðinni. Þetta var hugsað sem táknrænt af okkar hálfu. Aðrir sáu annað táknrænt við atburðinn, nefnilega hina karllægu aðkomu að formlegheitunum, og þar með stjórn samgöngumála í landinu. Við borðann var tæpt tonn af körlum en engin kona! Mun þessi borðaklipping nú ganga undir heitinu herraklippingin...
17. Október 2010
Þann 25. mars 2009 sendi ég þér neðangreint:
"Vísitala neysluverðs fyrir janúarmánuð var 334,8 og fyrir marsmánuð 334,5 stig. Sem sagt verðhjöðnun fyrstu þrjá mánuði ársins. Opinberir raunvextir eru hins vegar 15%. Sums staðar er fólk að greiða 25% af yfirdrætti. Það eru því raunvextir. Verið er að ræða hvernig hægt sé að leysa fortíðarvanda, án þess að nokkur virðist taka eftir því að verið er að framleiða tilvonandi fortíðarvanda á hverjum einasta degi." Mér sýnist þetta hafa orðið að áhrínsorðum. Og vil þess vegna bæta við...
Hreinn K
16. Október 2010
Mikið fagnaði ég þeirri frétt, að þú værir að taka við núverandi embætti. Loksins! Loksins! maður sem þorir að taka á málum. 1) Hæstiréttur Íslands er í dag verzlunarréttur. Hvað á ég við? Það er 300.000 kr. þröskuldur á málum sem heimilt er að áfrýja. Þannig að í veigamiklum prinsippmálum geta menn lent í því að ...
Kristjón Benediktsson
16. Október 2010
Ég legg til og tel nauðsynlegt að stofnaður verði íslenski þjóðarflokkurinn - með vinstri hreyfinguna grænt framboð, sem kjölfestuna + hreyfinguna + þeirra 6 framsóknarmanna, er samþykktu ákæru á hendur fyrrum ráðherrum ásamt öllum þeim þingmönnum samfylkingar, þeim er greiddu ákæru á hendur fyrrum ráðherrum!
Vestarr Lúðvíksson
16. Október 2010
Mér fannst þú ekki svara fyrirspurn Sigurðar Kára vegna fjárlagafrumvarps næsta árs almennilega og því spyr ég þig hreint út. Á fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir hagvexti, sem mun verða vegna byggingar álvers í Helguvík. Þetta stendur þar svart á hvítu. Hvernig getur þú þá stutt frumvarpið og stutt ríkisstjórn sem gerir ráð fyrir þessu álveri? Ég vona að þú svarir á mannamáli en ekki með froðusnakki.
Hermundur Sigurðsson
11. Október 2010
Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, á morgunverðarfundi Íslenskra Verðbréfa, þann sjöunda okt síðastliðinn: "Það fjármagn sem nú bíður átekta í skjóli lágvaxtalanda mun um síðir leita á gjöfulli mið. Þegar dregur úr flótta fjárfesta í öryggi lágvaxtalanda og þeir fara að horfa eftir betri ávöxtun þurfa íslensk stjórnvöld að vera reiðubúin að beina augum þeirra að Íslandi....vaxtamunur milli Íslands og viðskiptalanda þyrfti að vera nægur til að krónueignir teldust fýsilegur fjárfestingakostur við afléttingu gjaldeyrishaftanna." (Mbl. 8/10/2010) Stefna Seðlabankans er "sjálfstæð" en á ábyrgð skattgreiðenda. Þarf ekki að endurskoða þetta ...
Hreinn K.
10. Október 2010
...Þú fékkst 10,0 á þessu fyrsta prófi sem dóms- og mannréttindaráðherra. Svona fólk á að vera í stjórnmálum. Við hin þurfum hins vegar að stöðva grjótkast og önnur skrílslæti. Bestu kveðjur af Austurvelli.
Viggó Jörgensson
10. Október 2010
Þorsteinn Pálsson er sérkennileg blanda af lögfræðingi og lýðskrumara... Ekki er fullkomklega ljóst út frá efni greinarinnar hvort Þorsteinn nálgast málið út frá sjónarhóli lögfræðingsins eða lýðskrumarans. Í fyrstu mætti ætla að lögfræðingurinn hafi yfirhöndina en við nánari skoðun kemur í ljós að lýðskrumarinn er sá sem ræður ferðinni...Þessi vinnubrögð Þorsteins vekja enn fremur upp spurningar um hæfi hans sem nefndarmanns í viðræðum um aðild Íslands að ESB. Öruggt má telja að samningamenn ESB láti hvorki lögfræðinga eða lýðskrumara slá ryki í augu sín í þeim viðræðum enda þótt ...
KÁRI
9. Október 2010
Takk fyrir Ögmundur að leggja réttan skilning í skuldavandann.
kv.
Ingimundur Einarsson, Málarameistari
6. Október 2010
...Þessi mögnuðu orð Egils enduróma nú með djúpri skírskotun til þeirra samfélagslegu atburða sem íslensk þjóð verður nú vitni að, ekki síst úrræðaleysi þeirra sem telja sig æðri öðrum og vilja stjórna öðrum með vald-beitingu. Þú, Ögmundur Jónasson, ert nú Dómsmála-ráð-herra í refskák þeirri sem almenningur þessa lands fær litlu um ráðið í hinu marg-lofaða "opna og virka lýðræði". Níu-menningunum er enn haldið milli vonar og ótta og þér er tungu tregt at hræra meðan beðið er eftir fulltrúa almennings, Ögmundi Jónassyni, sem hugaður standi gegn óðræði. Nú, sem fyrr, er það lenska vald-ráða-manna í vél-ræði þeirra að klína anarkista-stimpli á sem flesta mótmælendur og gera þá varasama í augum almennings, jafnvel stór-hættulega, jafnvel mestu ógnina við ...
Pétur Örn Björnsson
6. Október 2010

Ávarpsorð til SÁÁ á hátíðarsamkomu í Háskólabíói 06.10.10.
...SÁÁ er eðli málsins samkvæmt raunsæasti félagsskapur sem til er. Það er ekkert sem kemur þeim sem þar starfar á óvart. Það er heldur ekkert sem er ómögulegt og það gæti hafa verið í félagi einsog SÁÁ sem til varð setningin: Verum raunsæ, stefnum á hið ómögulega....SÁÁ er einnig merkilegt fyrir tímamælingar sínar, þar sem hjá þeim er lengsta tímaeining einn dagur. Þeir hafa komist að því að sérhver maður lifir bara einn dag í einu. Þótt fyrir suma, geti fyrstu dagarnir eflaust verið einsog þúsund ár að líða, í baráttu við fíknir og sorgir og erfiði. Í óeigingjörnu starfi SÁÁ kristallast samt okkar íslensku þúsund ár ávallt í lokin í einum degi í lífi eins manns, sem berst baráttu uppá líf og dauða. Því öll verkefni SÁÁ eru uppá líf og dauða. Skekkjumörkin á þeim bæ eru skilin á milli feigs og ófeigs. Skilin milli ...
5. Október 2010
...Baráttan um Ísland hófst með ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, af því þessi "maður ársins 2007" sýndi á sér óvenju óheiðarlega hlið: "Er þetta að gerast vegna þess að við höfum ekki virkjað lýðræðið til lausnar á þessum vanda, að við höfum ekki hleypt nýju fólki, nýjum hugmyndum að á þinginu? Nei, það getur ekki verið ástæðan því að hér var kosið fyrir rúmu ári síðan og miklar breytingar urðu á skipan þingsins og ný ríkistjórn tók við." Þetta sagði Bjarni til að undirstrika enn frekar að fortíðin væri uppgerð og um hana ætti ekki að tala. Hvenær sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir af sér þingmennsku? Hvenær sagði Guðlaugur Þór Þórðarson af sér þingmennsku? Hvenær sagði Illugi Gunnarsson af sér þingmennsku? Hver var að tala um nýtt fólk, nýjar hugmyndir og nýjar lausnir? Málflutningur af þessu tagi er svo barnalegur að sautjándi maðurinn í þingflokki sjálfstæðismanna og sá sem er að reyna að reka sauðina í sama dilkinn, ritstjórinn, hlýtur að roðna bæði og blána. Færa má fyrir því rök að ...
Hafsteinn
4. Október 2010

...AGS minnti einnig á sig í fréttatímum dagsins með hefðbundnum boðskap um að ekki mætti koma til móts við skuldara með almennum aðgerðum. Og nú eru mánaðamót þegar lánastofnanir krefjast afborgana.
Eldar loguðu, egg flugu og því miður einnig grjót og golfkúlur í Alþingishúsið, „húsið okkar" eins og ung stúlka minnti á svo eftirminnilega haustið 2008. „Þetta er húsið okkar" sagði hún og stillti sér upp fyrir framan Alþingishúsið sem þá hafði verið undir skothríð eggja- og grjótkasts. En við þessi orð stúlkunnar hætti grjótkastið.
Lögreglan fékk sinn skerf af grjóti í kvöld. Og þinghúsið líka. Eldar loguðu á Austurvelli. Fólki var heitt í hamsi. Það var réttlát reiði - hjá flestum. Öllum bar saman um að lögreglan hefði sýnt æðruleysi og stillingu. Og þar með raunverulegan styrk. Stilling er styrkur var einu sinni sagt. Réttilega. Og þannig viljum við hafa lögregluna, rólega , yfirvegaða og æðrulausa: Gæslumenn mannréttinda...
3. Október 2010
Skjótt skipast veður í lofti, þú aftur orðinn ráðherra og það ekkert smávegis - loksins tókst vinstri mönnum að brjóta upp valdakerfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar! Mig langar til að þakka þér afburða góða ræðu á þingi Sambands sveitarfélaga, sem enginn misskilur nema nokkrar viðkvæmar háværar íhaldssálir. Gangi þér vel í þínum góða praxís!
Guðjón Jensson,
Mosfellsbæ
3. Október 2010
Nú eru tveir kostir í stöðunni. Sá verri er að þú verðir dæmdur í tukthús í náninni framtíð á grundvelli ráðherraábyrgðar að undangengninni mestu óöld síðan á sturlungaöld. Hinn skárri er að þú hemjir þær lögreglubullur ríkislögreglustjóra sem hann sendir alltaf á sínum vegum, þangað sem íslenska þjóðin er að nýta grundvallarréttindi sín til lýðræðislegra mótmæla. Þú hefur ekki tíma til að láta Ríkisendurskoðun gera stjórnsýsluendurskoðun á embætti ríkislögreglustjóra. Þú verður að gera þá stofnun strax óvirka og leysa hana svo upp áður en ...
Viggó Jörgensson
3. Október 2010
...Hvað er það versta sem gæti gerst ef lögreglan væri afvopnuð? Og, ef þú getur gert þér það í hugarlund, er það virkilega verra en að taka áhættuna af því ofbeldi sem orðið gæti ef lögreglan er vopnuð? Ég held reyndar, og tel að það hafi sýnt sig í Búsáhaldabyltingunni, að lögreglan gæti hæglega "samið" við mótmælendur um að hjálpa henni við að stoppa þessa örfáu ofbeldisseggi sem fela sig meðal mótmælenda. Ef lögreglan sýnir friðsömum mótmælendum engar ögranir, og leggur sig fram um að vinna traust þeirra, er ég viss um að hún gæti líka fengið þá til að láta óáreitt að lögregla, jafnvel vopnuð kylfum og brúsum, sæki hættulega ofbeldisseggi inn í mannfjöldann. Ég hvet þig líka til að skoða frétt sjónvarpsins frá atvikinu í Landsbankanum í dag. Hvað hefði gerst ef konan hefði verið látin óáreitt, og sérstaklega ef ekki hefði verið ...
Einar Steingrímsson
3. Október 2010
...Á sama tímabili hefur nánast allt annað starfsfólk RLS verið í ótrúlega heimóttarlegu "farbanni" ríkislögreglustjórans vegna "sparnaðar" (jafnvel þó að ytri aðilar séu tilbúnir til að greiða ferðakostnað). Reyndar virðist nú gæðum misskipt og þráttt fyrir að niðurskurður kunni að eiga sér stað yfir allar deildir þá er nú eins og starfsemi eins og Sérsveit megi ekkert skorta og kostnaður þar hækki á milli ára (þrátt fyrir að annað sé gefið til kynna).
Gróa
3. Október 2010
...Alls vorum við 3.000 sem æptum í dag, 01.10.2010 á Austuvelli: "Vanhæf ríkisstjórn! Vanhæft Alþingi!" Ég hef oft sent þér bréf áður og iðulega með nokkrum yfirveguðum spurningum sem þú hefur ekki séð ástæðu til, eða veigrað þér við að svara. Því spyr ég þig núna bara um þetta: Hvað vill ný-endur-bakaði ráðherrann Ögmundur gera ... boða til kosninga og freista þess að fá endurnýjað umboð ... eða skeyta engu og bíða veruleikafirrtur eftir útburði ... hverra?
Pétur Örn Björnsson
27. September 2010
Ágæt og þörf var fyrirspurn Ólafar Nordal um greiningu á því hvers konar kröfur stæðu á bak við nauðungaruppboð frá hruni. Einkennilegur kansellítónn var hins vegar í svörum Dómsmálaráðherra. Margir mannmánuðir, mikið verk að kanna etc. Maður næstum heyrir röddina í Mr. Humphreys í Yes Minister. Það er ekkert verk mikilvægara en að reyna skilja stöðuna sem við erum í á Íslandi og alveg hægt að fiska einhverja atvinnulausa fræðimenn í slíka rannsókn, sem sennilega tæki nú ekki nema ca. mánuð fyrir tvo menn. Gylfi Magnússon var frægur fyrir það í fyrra að ætla láta athuga stöðu heimilana og vera búinn að því innan ...
Hreinn K
27. September 2010
Sammála þér Ögmundur. Þetta var fín ræða hjá Össuri. Mannréttindi og náttúruvernd ættu að vera okkar aðalsmerki á alþjóðavettvangi. Þarna skammaði Össur bæði Íran og Ísrael þannig að ekki verðum við sökuð um hlutdrægni.
Viggó Jörgensson
27. September 2010
...ég skora hér með á þig til þess að endurskoða ákvörðun vinnumálastofnunar varðandi atvinnuleyfi fyrir Jussanam da Silva með hliðsjón af sérstökum aðstæðum hjá henni. Það eru á Íslandi ekki fáeinar konur af erlendum uppruna í sömu stöðu og hún er í augnablikinu þannig að ákvörðun mannréttindaráðuneytis um mál Jussanam er fordæmisskapandi hvað varðar hagsmunum þess hóps....
Luciano Dutra, þýðandi IS-PT.
27. September 2010

Viðtal birt í Fréttablaðinu 25.09.10
...Stjórnmálamenn gera oft mikið úr eigin verkum og stæra sig af þeim. En hin raunverulegu afrek eru unnin í hvunndeginum af hinum almenna starfsmanni sem oft þarf að taka á sig aukið erfiði og vanda vegna ákvarðana stjórnmálamanna. Í heilbrigðisþjónustunni er árangur og sigrar ekki síst starfsfólkinu að þakka - ekki þeim sem situr á ráðherrastóli þá stundina eða hina. Það er hins vegar hlutverk ráðherrans að reyna að örva menn til verka og dáða og kalla það besta fram í hverjum og einum. Öflug heilbrigðisþjónusta verður ekki rekin með tilskipunum. Sjúklingar vilja það ekki, starfsfólkið vill það ekki og þjóðin vill það ekki...
26. September 2010

...Mikil samkoma var í íþróttahúsi Bolungarvíkur að opnun lokinni. Þar voru haldnar ræður og sungið. „Þetta er stór stund fyrir okkur sem eigum rætur fyrir vestan," sagði forsetinn. Stundin var tilfinningahlaðin. Þarna voru þingmenn allra flokka og allt litrófið úr sveitarstjórnarpólitíkinni. Öll komin upp úr flokkspólitískum hjólförum. Öll á einu máli. Á svæðinu voru mættir tveir öldungar sem tekið höfðu þátt í Óshlíðar-pjakkinu á fimmta áratugnum. Ég óskaði þeim til hamingju með daginn. Þeir tóku kveðju minni vel. Annar þeirra, Sigurður Sveinsson, sagði að nú...
26. September 2010
Það gerist ekkert ef ekki fer fram almennt uppgjör í okkar samfélagi. Það getur ekki þessi ríkisstjórn gert það hefur sannað sig. Það verða að fara fram Alþingiskosningar sem fyrst, annars gerist ekkert. Þessi ríkisstjórn ætlaði að slá skjaldborg um heimilin en það hefur ekki verið gert. Það hefur verið slegið skjaldborg um fjármagnseigendur og fyrirtæki. Það getur ekki gengið endalaust að atvinnulausir, fátækir, öryrkjar og eldriborgarar taki á sig skerðingar meir.
Þórir Karl Jónasson
25. September 2010

Aldrei hefur mér ţótt eins vćnt um málflutning af Íslands hálfu á Allsherjarţingi Sameinuđu ţjóđanna og ţann sem Össur Skarphéđinsson, utanríkisráđherra, flutti nú í vikulokin....Hér var talađ tćpitungulaust og
óttalaust um réttlćtismál án ţess ađ fá áđur stimpil ađ utan, ţađ mátti sjá úr mílufjarlćgđ - svo mikiđ ţykist ég vita um utanríkismál. Í Vinstrihreyfingunni grćnu frambođi erum viđ flest ósammála utanríkisráđherra um ESB en mannréttindakafla ţessarar rćđu hefđum viđ getađ flutt kinnrođalaust. Svo mikiđ veit ég. Össur tók upp mál ...
24. September 2010
Ég skrifaði þér tölvupóst þar sem ég hvatti þig til að koma í veg fyrir það níðingsverk sem virðist vera í uppsiglingu gegn Jussanam da Silva. Svo sá ég þig í ríkissjónvarpinu þar sem fjallað var um þetta mál. E.t.v. hefur viðtalið við þig verið klippt með óeðlilegum hætti, en þar sagðir þú ekkert um kjarna málsins, þ.e.a.s. hvað þú hyggist gera til að koma í veg fyrir aðfarir af þessu tagi. Það eru margir sem setja traust sitt á þig í mannréttindamálum sem nú heyra undir þig sem ...
Einar
22. September 2010
Til hamingju með embættið. Ég hef mikla trú á þér í þessu hlutverki og hef aldrei orðið ráðherraskiptum jafn fegin. Mig langar að vita hvort mannréttindaráðuneytið hefur beitt sér eitthvað í máli írönsku konunnar Sakine Ashtiani sem nú bíður þess að verða grýtt til bana. Ef ekki, hvaða áform eru þá uppi um það? Mig langar líka að heyra persónulegt álit þitt á þeirri stefnu sem virðist algeng hjá íslenskum ráðamönnum, að senda ríkisstjórnum sem verða uppvísar að mannréttindabrotum bréf en birta efni þeirra ekki opinberlega...
Eva Hauksdóttir
22. September 2010
Sæll Ögmundur, Ég hvet þig til þess að endurskoða mál Jussanam de Silva og veita henni landvistarleyfi, og jafnframt að sjá til þess að vinnubrögð Útlendingastofnunnar verði endurskoðuð.
Bkv.
Sveinbjörn Þórðarson
22. September 2010
Er nú ekki mál að linni. Eigum við Vestmanneyingar nú að borga meira fyrir að ferðast eftir þjóðvegi en aðrir landsmenn? Hvernig væri að taka peningana sem fara í ESB viðræður sem gagnast engum og verða felldar af þjóðinni?Við mótmælum þessum hækkunum ef af verður því reynslan er sú að það sem einu sinni hefur verið hækkað lækkar ekki. Við eigum ekki að gjalda fyrir eldgos og hönnunargalla .Við hérna í eyjum þekkum eldgos vel og höfum fengið okkar skerf af þeim. Hvernig væri að þið VG menn tækjuð ykkur tak ...
Inda Marý Friðþjóðfsdóttir
17. September 2010

Á blaðsíðu 88 í skýrslu nefndar Hjördísar Hákonardóttur um lögmæti Magma-kaupanna á HS Orku er athyglisverð tafla. Þar er spurt annars vegar um þröngar lögformelgar skýringar og er niðurstaðan sú að Magma-kaupin kunni að standast slíka skoðun „ þótt það sé ekki á færi annarra en dómstóla að kveða endanlega upp úr um hvernig beri að líta á staðreyndir í máli sem þessu og hvaða túlkun laganna sé rétt." Þegar hins vegar horft sé til þeirra markmiða sem lágu að baki löggjöfinni um erlendar fjárfestingar og þegar ekki er horft einvörðungu á formleg eigna- og hagsmunatengsl heldur til „raunverulegra hagsmuna og tengsla" þá megi ætla að salan sé ólögleg.
Gott og vel. Þar höfum við það. Magma fór á svig við vilja löggjafans en gæti komist upp með undanbrögð í ...
17. September 2010
Í ágætri grein í TMM segir Solla að fjórir hópar háskólamanna hefðu átt að vita betur fyrir hrun: lögfræðingar, viðskiptafræðingar, hagfræðingar og endurskoðendur. Það sem skýrsla þingmannanefndarinnar boðar varðandi Landsdóm er ekkert annað en endurkoma sérfræðingaveldisins sem kom okkar í þessa stöðu sem við nú erum í. Sérfræðingaveldið er lífseigt og í skýrslu þingmannanefndarinnar rekur hvert sig á annars horn. Annar hluti hennar fjallar um umbætur í anda lýðræðis. Hinn hlutinn er þvælan um Landsdóm sem tilraun til að koma lögfræðingunum til æðstu áhrifa og valda yfir hinum svo kallaða Landsdómi. Eða hvað? Þingmannanenfndin var undir ...
Kjartan Emil Sigurðsson
17. September 2010
...Á sama tíma er ungur borgarstóri í Reykjavík að taka á móti sendimanni Keisarans í Kína sem hingað er kominn í nafni frelsis, vináttu og hjálpsemis. Borgarstjórinn rétti sendimanninum bréf þar sem óskað er eftir að rithöfundur, sem situr inni vegna skoðanna sinna, samviskufangi, verði látinn laus. Bogarstjórinn virðist óhræddur virða mannréttindi framar undirlægju. Hvað gerðist? Sendiboði heimsveldisins hvarf á braut, eins og Fagin í Olíver Twist, án þess að kveðja gestgjafa sinn. Ég tek ofan fyrir borgarstjóranum, en er ekki kominn tími fyrir þjóðina að losna við þennan forseta?
Eyjólfur Akrafjall
16. September 2010
Eftir að hafa lesið kyngreiningu þingmannaskýrslunnar, áttar maður sig á því hversu mikilvægt er mótvægi Evrópuhverfra þingmanna sem mótvægi í tákngervingu valdsins. Það er greinilegt að margir þingmenn hafa ákveðið að bogna ekki, í fárviðrinu sem geysar í sápukúlunni, sem Alþingi er að verða. Einn þeirra er Össur Skarphéðinsson sem er dæmi um ókyngervðan, ójaðarsettan, óþaggaðan en þrátt fyrir allt óþjóðhverfan þingmann af gamla skólanum. Maður hugsar með sér, þegar maður hlustar á hann: "þetta er allt að koma".
Hreinn K.
16. September 2010

...Sigurður Kári Kristjánsson er einn skemmtilegasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ég er sjaldan sammála honum en hann er sjálfum sér samkvæmur og varðveitir enn glóð hins unga hugsjónamanns. En einmitt vegna þess að hann er ekki aldurhniginn maður og ætti enn að hafa sæmilega heyrn þá brá mér við pistil hans í gær þar sem hann fjallar um viðtal við mig í morgunútvarpi RÚV í gær. Sigurður Kári taldi sig hafa heyrt mig vitna í ræðu Atla Gíslasonar sem enn hefur ekki verið flutt um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum. Þau ykkar sem nennið að hlusta á viðtalið (slóð hér...
12. September 2010
Undirritaður hlustaði á nokkuð yfirlætisfullar staðreyndarfærslur utanríkisráðherra nú fyrir skemmstu. Staðreyndarfærslur þessar tilheyra þeirri ógn og skelfingu sem yfir okkur kunna að hellast í líki hörmungar þeirrar er sambandsaðild Evrópu kallast. Í umfjöllun sinni vildi téður ráðherra gera lítið úr þeim áhyggjum manna sem ótta bera fyrir brjósti varðandi sjávarútvegsmálin..... Sem betur fer mun viðk. ráðherra ekki fara með þennan málaflokk fyrir hönd þjóðarinnar heldur maður sem sýnt hefur að þarna verði ekki kastað til höndum og vona ég að Jón muni fá staðfestingu á ummælum þessum hið fyrsta hjá fiskveiðistjórnun Evrópusambandsins. Mér finnst það hroðaleg handvömm að ætla að fleygja þjóðinni þarna inn bara til þess eins að fá evruna til að leysa krónuna af.
Óskar K Guðmundsson fisksali
11. September 2010
Það fer lítið fyrir þeirri umræðu í fjölmiðlum varðandi ESB að þeir hafa hækkað hressilega aðildargjöldin og um leið dregið úr endurgreiðslum. Bretar missa 3 milljarða punda sem þeir hafa fengið sl.ár vegna búvörustyrkja en nú telur ESB að jafnvægi hafi verið náð á innri markaði og því séu endurgreiðslur til þeirra lækkaðar og útgjöld Breta aukast sem þessu nemur. Það er nú ekki svo að ...
Þór Gunnlaugsson
9. September 2010
Ég legg til að þú beitir þér í stöðu þinni nú fyrir setningu laga um skipulagða glæpastarfsemi og þurfa þau að þekja alla glæpastarfsemi, jafnt skipulagðra glæpahópa sem og pólitískra hópa/flokka, sem meðal annars hafa með glæpum sínum og virðingarleysi við eðlilegt siðferði og lýðræði, velt íslensku efnahagslífi á hliðina og fært heilbrigðis-, mennta-, félags- og löggæslumál og reyndar allt mannlíf til jafns við rekstur í vanþróuðum ríkjum með fjársvelti í nafni sparnaðar. Nauðsyn er að fara vel með fé en landið er komið í flokk með vanþróuðum ríkjum af þessum sökum. Þá ber að benda á að ...
Þórður Eric
9. September 2010
Svavar Gestsson, ágætur félagi um margra ára skeið og baráttumaður fyrir málstað launafólks alla sína tíð, setur fram merkilega kenningu í Fréttablaðinu þann 7. september 2010. Hún er svona: "Þegar ég skilaði niðurstöðu Icesave-samninganna vorið 2009 var almenn ánægja með niðurstöðuna víða, meðal annars í Morgunblaðinu. Þá gerðust þau undur að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar gerði bandalag við stjórnarandstöðuna um að Ísland ætti ekki að borga". Vandinn við þessa kenningu er sá að samningunum var haldið leyndum í upphafi. Fyrst fyrir ríkisstjórn og síðan fyrir þinginu. Og síðan fyrir þjóðinni. Það var ekki fyrr en efni samninganna lak út til fréttastofu RÚV, nafnlaust í brúnu umslagi að efni þeirra var almenningi ljóst. Það gat aldrei orðið ánægja með eitthvað sem enginn vissi hvað var. Það átti að lauma samningunum í gegn án þess að þing og þjóð fengi um þá vitneskju. Þar var ekki við Svavar að sakast, heldur við ...
6. September 2010
Ögmundur, komdu með stuðning við frjálsar handfæra veiðar, þarna gætu orðið til þúsundir starfa, án þess að ríkið leggi til krónu, þetta gæti orðið næsta stóriðja. Það er búið að koma almenningi í sömu spor og á miðöldum, þú mátt ekki róa til fiskjar og fénýta aflann. Á meðan ræna örfáir útvaldir þjóðina lífsbjörginni með því að ryksuga fiskimiðin með verksmiðjuskipum, og skilja miðin eftir í rúst. Það eru 15.000 manneskjur atvinnulausar, þær mega ekki bjarga sér, þó til séu ...
aagnarsson
5. September 2010
Það er einkennilegt þegar menn af vinstri vængnum vilja absólút dæma íslenskan verkalýð til ævarandi þrældóms; 60 stunda vinnuviku og hárra vaxta. Láta svo LÍÚ reka sjávarútveginn þannig að gengisfellingar verði notaðar til að leiðrétta reksturinn þegar búið er að uppfæra bílaflota stjórnenda og húsakost á Íslandi og Florida. Svo hugsar maður til baka og man þá að sá til vinstri einkavæddi ræstinguna á spítölum borgarinnar eins og að drekka vatn. ...
Villi
5. September 2010
Erindi fagnaðar hefur nú nýverið verið boðað hvers innihald ber með sér staðfestingu á styrk Ögmundar og Jóns Bjarnasonar. Ég geld engu síður varhug við að hróflað verði við Jóni um næstkomandi áramót í aðdraganda stofnunar atvinnuvegaráðuneytis. Þá er viðbúið Ögmundur minn að þú þurfir að endurstílisera línuna sem forveri þinn úr samstarfsflokknum hafði lagt, en þá á ég við vegtolla og stapp við lífeyrissjóðina. Ég held aukinheldur í vonina um afturköllun aðildarumsóknarinnar sem og breyttan prófíl á undirlægjuhætti gagnvart AGS. Nú ríður á Ögmundur minn kæri að þú nýtir það bakland og þann styrk sem að baki því býr og mundu að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
4. September 2010
Birtist í Fréttablaðinu 02.09.2010.

Séra Þórir Stephensen beinir til mín spurningu í grein sem hann skrifar í Fréttablaðið 21. ágúst. Hann segir: „Ögmundur Jónasson birti ... nýlega grein í Mbl. „Virkisturn í norðri" heitir hún. Hann vænir ESB um ýmislegt í eftirfarandi málsgrein...Getur Ögmundur bent mér á einhver dæmi um, að slíkt hafi gerst í samskiptum ESB við aðildarlöndin? Ég þekki þau ekki, og geti hann ekki komið með dæmi, þá er þetta ekkert annað en ómálefnalegur hræðsluáróður."
Þetta er enginn hræðsluáróður og ekki er þetta heldur ómálefnalegt...
4. September 2010
Loksins, loksins ...er kominn ráðherra löggæzlumála, sem ekki er úr Sjálfstæðisflokki. Ég óska þér góðs gengis með þann málaflokk sem og aðra sem þú nú stjórnar. En gumar og mær Sjálfstæðis sitja víða við stjórn DMR og stofnana þess. Ætli matið á "hæfi" þeirra margra hafi ekki verið ákveðið með flokksgæðingaþukli pótintáta og þægðarstuðlum frekar en raunverulegu hæfi. Gangi þér líka vel að eiga við þann skrautlega hóp.
kveðja,
Ver
4. September 2010
Fyrst hægt er að greiða tugmilljóna biðlaun til fyrrverandi ráðherra og að varnarmálafulltrúi, eða hvað það hét, fær full laun í fjóra mánuði eftir að starfið er lagt niður,væri þá ekki bara sanngjarnt að þeir lífeyrisþegar sem hafa kr. 150 þúsund á mánuði eftir skatta, fái smáhækkun á þá forsmán....
Edda Ögmundsdóttir
31. Ágúst 2010
Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson
29. Ágúst 2010

Undrandi varð ég á ummælum Ólafar Nordal, varaformanns Sjáflstæðisflokksins, í hádegisfréttum RÚV í gær, þar sem hún hélt því fram að ágreiningur sem upp hefði komið innan stjórnarliðsins á Alþingi hefði "skaðað hagsmuni íslensku þjóðarinnar"! Hvað á varaformaður Sjálfstæðisflokksins við, Icesave, Magma eða ESB? Eða er einfaldlega að taka sig upp gamalt mein í Sjálfstæðisflokknum, gömul þrá eftir einni skoðun: Skoðun valdsins, "Réttu skoðuninni"? Þessi tími er liðinn Ólöf. Hann á að vera liðinn. Óvinir ríkisins hétu þau ...
27. Ágúst 2010
Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur
26. Ágúst 2010

...Í þessu samhengi þykir mér til fyrirmyndar sú áhersla sem Háskólinn á Akureyri leggur á rannsóknir í norðurslóðafræðum. Hvers vegna? Jú, vegna þess að Ísland er á norðurslóðum, norðurslóðir eru að fá aukna þýðingu á hinu stórpólitíska heimskorti - og síðast en ekki síst það er skynsamlegt að við sérhæfum okkur í málum sem við höfum forsendur til að geta gert mjög vel. Og því sýnist mér Háskólinn á Akureyri markvisst stefna hvað varðar norðurslóðafræði...
26. Ágúst 2010
Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson
25. Ágúst 2010

...Þegar það síðan gerist að viðræðuferlið verður að aðlögunarferli - að því er séð verður - og boðið er upp á fjárveitingar til að smyrja ferlið sem best, þá spyrnir Jón Bjarnason við fótum enda er það í hans ráðuneytum sem mestu kröfurnar eru reistar. Þetta er fullkomlega málefnalegt og eðlilegt og nokkuð sem ríkisstjórnin mun án efa taka til skoðunar af fullri alvöru. Þá er hitt ljóst að á nákvæmlega sama hátt og stuðningsmenn stjórnarinnar eru frjálsir að því að tjá Evrópusambandinu ást sína, þá eru aðrir frjálsir að hafa uppi efasemdir um slíkt ástarsamband. Rétt er að hafa í huga að síðarnefndi hópurinn á hljómgrunn með stórum hluta þjóðarinnar - að öllum líkindum meirihlutanum eins og staðan er nú! Læt ég þá liggja á milli hluta að...
25. Ágúst 2010
....
Svo mættu þeir sem kunnu ýmsa klæki
og kynntu herrum skúffufyrirtæki,
þeir vildu þagga alla skrílsins skræki.
Þá skefjalausum fortölum var beitt
og loforð fóru útum ríkið allt.
Er aðstoð varla sýndi nokkur granni
þá hjálpin kom frá nískum námumanni
sem náði létt að sneiða framhjá banni,
því orkuríkið virtist flestum falt
og fyrir það hann greiddi ekki neitt.
......
Kristján Hreinsson
25. Ágúst 2010
Erfitt er að horfa upp á endalausar árásir og níð Evrópubandalagssinna og svokallaðra ´jafnaðarmanna´ gegn Jóni Bjarnasyni fyrir að það eitt að standa eins og maður í lappirnar og krefjast þess að umsóknin inn í Evrópusambandið verði dregin til baka. Fáráðsumsóknin var blekking ein um ´viðræður´ sem hafa enga þýðingu og sótt var um með pólitísku ofbeldi gegn vilja stærri hluta þjóðarinnar sem vildu fá að kjósa fyrst. Skrýtin eru rök Evrópusambandssinna, sem halda oft bæði fram að við ...
ElleE
23. Ágúst 2010
Hef gaman af jafnvægisleysi í framhaldi af skrifum þínum um Evrópusambandið og imperialisma, sem auðvelt var að afbaka - en snerist oft í höndum gagnrýnenda og varð að lokleysu. Þá minntist ég vísu úr ljóðabálki eftir Steingrím Baldvinsson í Nesi í Aðaldal, sem birtist í Frjálsri þjóð, 1. árg. 1952, 14. tbl. bls. 3. :
Að leysa sjálfir sína hnúta
sýnist þeim ei nauðsyn rík
er imperíalismans lúta
utanstefnupólitík
kv. a
23. Ágúst 2010

Birtist á Smugunni 22.08.10.
...Er gagnrýnin umræða metin að verðleikum; lögð út á besta veg? Eða er hún enn metin á grundvelli valdastjórnmála? Því miður eru alltof margir í gamla farinu. Talað er um „að rugga bátnum" þegar stjórnmálamenn lýsa skoðun sem gengur þvert á hið viðtekna í Stjórnarráðinu þá stundina. Talað er um „órólega deild", „illsmalanlega ketti" og þar fram eftir götunum.Í grein á Smugunni mælir Ármann Jakobsson styrk ríkisstjórnarinnar á grundvelli gamalla mælikvarða...
22. Ágúst 2010
Ég sé á
http://orkuaudlindir.is/ að stöðugur straumur er inn á síðuna að undirrita áskorun til varnar orkuauðlindunum. Mig langar til að þakka Attac samtökunum og aðstandendum undirskrifatsöfnunarinnar um almannaeign á orkuauðlindum fyrir framtak sitt á Menningarnótt. Það var gaman að fylgjast með listafólki "troða upp" fyrir framan gamla Hegningarhísið og fylgjast með því hve margir virtust vera að skrifa undir áskorunina. Ég fór þarna þrisvar framhjá og var ...
Sunna Sara
22. Ágúst 2010
... Kjósendum á sölusvæði Reykjavíkurveitnanna er ætlað að rétta af fyrirtækið svo það geti framleitt orku fyrir stóriðju. Ef þetta er gert að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þarf Jón Gnarr að segja frá því beint út. Sem sigurvegari kosninganna ber honum að koma fram og tala við okkur kjósendur. Ekki skjóta öðru fólki fyrir sig eins og skjöldum. Ikke spille dum. Hækkun orkuveitnanna er ekki djók, atriði á skemmtikvöldi, eða uppistand. Skemmtimennirnir Gnarr og Dagur hafa engan rétt á að skemmta sér á minn kostnað. Hver setti Orkuveituna á hausinn? Ekki var það Davíð!
Jóna Guðrún
21. Ágúst 2010
Á menningardag/nótt er efnt til dagskrár við gamla Hegningarhúsið á Skólavörðustígnum í Reykjavík. Það eru samtökin Attac á Íslandi sem fyrir þessu standa. Þarna gefst fólki kostur á að skrá nafn sitt undir áskorun sem nokkrir valinkunnir einstaklingar hafa staðið fyrir, þeirra á meðal Björk, Oddný Eir Ævarsdóttir og Jón Þórisson. Þetta er einnig hægt að gera rafrænt ...Frá dagskránni segir á Smugunni sem mér sýnist ætla að verða næmari á grasrótina en flestir aðrir fjölmiðlar. Ekki veitir af að hlustað sé eftir röddum sem víðast að úr þjóðfélaginu.
Ég leit við á Skólavörðustígnum um miðjan dag ...Því miður heyrði ég aðeins lítið brot dagskrárinnar sem er hreint frábær. Hér er slóð á Smuguna sem segir ...
18. Ágúst 2010

...Tilefni skrifa
Guðfríðar Lilju Á
Smugunni og komu þeirra,
Bjarkar, Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur og
Jóns Þórissonar í
Kastlljós, gef ég mér að hafi verið frágangur á samningi við Magma Energy sem ég hélt að hefði verið settur á ís. Nei, forstjórinn kom í fjölmiðla í gær og sagði að ekki hefði verið hægt að bíða lengur eftir stjórnvöldum! Það er eðlilegt að spurt sé, eins og Guðfríður Lilja gerði í pistli sínum, hver ættti að ráða á Íslandi, fjármagnið eða fólkið. Sannast sagna hélt ég að ósvífin framganga Magma forstjórans myndi fleyta honum inn á forsíður blaða í dag. Svo var ekki...
18. Ágúst 2010
...Ekki veit ég hvoru megin þessir sérfræðingar fóru fram úr rúminu sínu en við höfum nú þegar allar heimildir sem við þurfum til að verja landið og það þarf bara að nýta þær. Við höfum uppsettan til fjölda ára myndavélakerfi í Flugstöðinni sem mælir höfuðbein viðkomandi á örskotsstundu og ber saman við tengda gagnagrunna Evrópsku lögreglunnar á meðan hann röltir eftir landganginum en Persónuvernd hindrar að hann sé nýttur til fulls. Því þarf að breyta lögum og Persónuvernd hafi ekki valdsvið í Flugstöðinni. Þá er hægt að skoða vegabréf þeirra sem koma til landsins um Schengensvæðið án þess að spyrja neinn um leyfi en Dómsmálaráðherra þarf bara að ...
Þór Gunnlaugsson
17. Ágúst 2010
Birtist í DV 16.08.10.

...Þetta varðar Jóhann Hauksson ekkert um. Hann bara fullyrðir og fordæmir. Ég treysti því að hver og einn dæmi fyrir sig á mælikvarða réttsýni og sanngirni. Hvað varðar eignarhald á auðlindum Íslands hef ég varað við einkavæðingu þeirra og sagt að ekki sé munur á innlendu og erlendu eignarhaldi einkaaðila nema að því leyti að fjárstreymi arðgreiðslna úr landi sé meira ef eignarhaldið er erlent. Það komi niður á íslensku hagkerfi... En bíðum við, Jóhann Hauksson lætur ekki staðar numið við meint útlendingahatur mitt. Undir millifyrirsögninni,
„Ruglingur og ósamkvæmni", gerir hann því skóna, að ég og aðrir þingmenn VG - vísar einhverra hluta vegna aðeins til okkar nokkurra með nöfnum - hefðum sýnt einkavæðingu HS orku fullkomið tómlæti ...Hvað skyldi nú vera rétt í þessu?...
17. Ágúst 2010
Ég las yfirvegaða og rökfasta grein Ögmundar í Morgunblaðinu. Stundum er persónulegur skætingur svar rökþrota manna og því miður varð sú raunin einmitt í þetta skipti. Stundum er talað um að "við vitum ekki hvað hvað aðild feli í sér fyrr en samningur liggi fyrir". Þetta er auðvitað fráleitt því í sjálfum Rómarsáttmálanum er kveðið á um það að Evrópusambandið hafi eina fiskveiðilögsögu. Samningur sem fæti í bága við grunnlög ESB er útópía enda yrði hann umsvifalaust dæmdur ógildur af Evrópudómstólnum. Einhver sem kallar sig S (tek fram að það er ekki ég)og segist vera indíáni finnst Ögmundur og Davíð hafa ...
Sigurður Þórðarson
16. Ágúst 2010
Ég las grein þína Virkisturn í norðri hér á síðunni eftir að hafa lesið gagnrýni á hana í Fréttablaðinu. Mér þykir mjög merkilegt hvað menn bregðast hart við í ljósi þess hve hófsöm grein þín er. Ég er einn einn þeirra sem mótmælti friðsamlega á Austurvelli vikum saman eftir hrunið í þeim tilgangi að reyna að koma ríkissjórn Geirs Haarde frá. Í sama tilgangi skrifaði ég þrjár greinar í Mbl. Fyrst kom "Frjálshyggjuflónin og fúafenið", þá "Sagnfræðingurinn Ingibjörg Sólrún" og loks "Fjórða ríkið, ESB". Það var mjög merkileg lífsreynsla að upplifa það að umrædd ríkisstjórn lét friðsamleg mótmæli og málefnalegar blaðagreinar sem vind um eyrun þjóta og fór ekki frá fyrr en farið var að beita ofbeldi. Ég benti á að svo myndi fara í tveim fyrstu greinum mínum. Það gekk eftir. Í þriðju greininni segi ég meðal annars...
Björn Guðmundsson
15. Ágúst 2010
...Það kemur mér á óvart að nú spretta upp raddir innan VG sem virðast reka í rogastans yfir andúð VG á Evrópusambandinu. Ég hélt satt að segja að róttæknin í VG væri síst tengd sægreifum og bændum, eins og Pétur nokkur heldur fram. Að andúð hugsjónafólks í VG í garð Evrópusambandsins hafi eitthvað með hagsmuni þessa tveggja samfélagshópa er vægast sagt barnalegt og þjóðernisrembingslegt. Heldur maðurinn virkilega að Evrópuumræðan sé á svona lágu plani? Hann getur verið í því. Pétri til upplýsingar væri gott fyrir hann að lesa frábært svar Svandísar Svavarsdóttur við því hvers vegna VG er á móti aðild að Evrópusambandinu, þótt hún hafi viljað lýðræðislegar kosningar um aðild, rétt eins og þú, kæri Ögmundur. Læt svarið fljóta með...
Kjósandi Vg ekki Alþýðubandalagsins
15. Ágúst 2010

Hvers vegna skyldi ég birta þassa mynd, sem tekin er við höfnina í Reykjavík á góðviðrisdegi? Ég birti hana til að vekja athygli á því iðandi lífi sem þarna er að skapast með veitingahúsum, kaffistöðum og listviðburðum. Um daginn fékk ég mér dýrindis síld á útiveitingastað við Geirsgötuna og fór að því loknu að horfa á stórgóða mynd Valdimars Leifssonar, kvikmyndagerðarmanns, í litlum sal fyrir ofan kaffistaðinn Haiti, um eldgosið í Eyjafjallajökli. Ég var þarna á ferð með íslenskum vini mínum og höfðum við báðir mikla ánægju af. Ef ég hefði verið með erlenda gesti á ferð hefði ég gert nákvæmlega þetta, borðað við höfnina og sýnt þeim dramtískar myndir af nýafstöðnu eldgosi! ...Og þá aftur að spurningunni: Er þetta auglýsing?...
15. Ágúst 2010
Fyrst vil ég segja að grein Björns Jónassonar er mjög góð og bendir fólki á hver örlög íslensku þjóðarinnar verða, ef núverandi ríkisstjórn fær því framgengt að koma íslensku þjóðinni í ESB. Hann er ekkert að skíta Evrópu út og kalla ráðamenn þar bölvalda heims, sem eiga ekki skilið að Ísland sameinist þeim....Þess vegna tel ég að aðildarumsókn Íslands að ESB kostnaðarsamt og tilgangslaust rugl fyrir íslenska skattgreiðendur, og að þeir sem greiddu atkvæði á háttvirtu Alþingi Íslands að hafnar yrðu aðildarumsóknarviðræður við Brussel, eigi að skammast sín og biðja Íslensku þjóðina opinberlega afsökunar fyrir þau mistök! Ég vona að biðin verði ekki eins löng og biðin eftir opinberi afsökun Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar fyrir að hafa gert íslensku þjóðina samseka stríðsglæpum ...
Helgi
14. Ágúst 2010
Ekki er allt stuðningsfólk VG á móti ESB, öðru nær. Það eru fyrst og fremst 2 þjóðfélagshópar sem óttast um hagsmuni sína verði gengið í bandalagið, útgerðarmenn og bændur. Hægt er að fullyrða að hagsmunum allra annarra atvinnuvega á Íslandi er betur borgið innan ESB. Landbúnaður á Íslandi er sá dýrasti í heimi en afurðirnar eru alls ekki þær bestu. Skattgreiðendur í þéttbýli greiða milljarðatugi í styrki inn í greinina á hverju ári. Framþróun er lítil í íslenskum landbúnaði og ...
Pétur
13. Ágúst 2010
Ég hvet alla til að lesa grein Björns Jónassonar í Frjálsum pennum hér á síðunni. Hann skýrir ágætlega hvers vegna bírókratar og háskólamenn margir verða svona æstir þegar ESB bátnum er ruggað. Björn hittir naglann algerlega á höfuðið í frábærri grein sinni þar sem hann segir að rétt sé að menn geri grein fyrir sér í umræðunni!: "Þannig yrðum við Íslendingar styrkjaþjóð. Atvinnuleysi meðal menntamanna yrði ekkert. Lífsrými ESB-stórríkisins myndi stækka og atvinnutækifærum menntamanna fjölga og olnbogarými stjórnmálamanna í Brussel myndi aukast. Það er í þessu ljósi sem ber að skoða tilfinningahita ESB umræðunnar. Það eru margar stéttir sem sjá hag sínum borgið við innlimun Íslands. Það er hins vegar ljóst að Ísland verður ekki lengur ...
Sunna Sara
13. Ágúst 2010
Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...
13. Ágúst 2010
Þegar ég las ummæli Hermans van Rompuy um ESB fannst mér ég heyra bergmál úr fortíðini. Hvaða félagsskapur er okkur ætluð að ganga í? Stórveldisdraumar úr Evrópu hafa aldrei orðið til frambúðar. Hvar er Rómverska ríkið sem einu sinni náði allt til Írlands? Hvar er keisararíki Austurrikis og Ungverjalands? Hvar er þýsk-rómverska keisararíkið. Hvar er ríki Lúðvigs sól-konungs þar sem sólin gekk aldrei til viðar? Hvar er ríki Napóleons Frakklandskeisara. Hvar er það sem áttu að vera þúsund ára ríki Hitlers og krafan um lifsrými. Hvar er brezka heimsveldið? Spánverjar áttu ríki í Suðurameriku. Hvar er það? Þær þjóðir sem stóðu að þessu öllu og meira til eru saman komnar í Efnahagsbandalagi Európu. Það átti aldrei að verða ...
Andrés Adolfsson
13. Ágúst 2010
Greinin þín VIRKISTURN Í NORÐRI? var afar góð og vel skrifuð og mér fannst nákvæmlega engu skipta þó þú hafir notað e-r orð sem sumum fannst ekki passa. Öðrum fannst þau passa vel. Notum við ekki öll orð sem sumum finnst ekki passa og kannski mest þegar okkur ofbýður? Enginn getur þóknast öllum, það mikið er víst. Voru það ekki sömu mennirnir og kalla okkur hin, ranglega, einangrunarsinna og þjóðrembur? Og það er víst í lagi. Það er víst ekkert nýtt að allir þeir sem vilja ekki ganga í Evrópuríkið, séu kallaðir einangrunarsinnar og þjóðrembur af Evrópustórríkissinnum, þó við yrðum akkúrat fyrst einangruð þar. Og þó fullveldi lands komi ekkert einangrun við, heldur frelsi. En þið í VG studduð og voruð með í fáráðsumsókninni ...
ElleE
13. Ágúst 2010
Birtist í Fréttablaðinu 12.08.10.

Á undanförnum tveimur áratugum hef ég átt þess kost að koma að málefnastarfi á vegum Evrópusambandsins sem stjórnmálamaður og forsvarsmaður í verkalýðshreyfingunni og hef ég reynt að láta til mín taka í slíkri vinnu einsog ég frekast hef orkað. Marga góða samstarfsfélaga - og skoðanasystkin - hef ég eignast í gegnum tíðina á þessum vettvangi. Innan Evrópusambandsins eru að sjálfsögðu, einsog í öllu mannlegu samfélagi, mismunandi stefnur og straumar. Ofan á hafa orðið í seinni tíð sjónarmið markaðshyggju og hefur almannaþjónustan, svo og samningsréttarkerfi verkalýðshreyfingarinnar, átt nokkuð í vök að verjast fyrir ásókn þessara afla. Í þessu sambandi má nefna, sem nýlegt dæmi ...
10. Ágúst 2010

...Ekki er þó síður alvarlegt fyrir trúverðugleika stjórnvalda ef fólk fær þá slæmu tilfinningu að einstaklingar séu látnir gjalda skoðana sinna - skoðana sinna á fjármála- og hagsmunatengslum stjórnmálamanna. Heyrst hefur að Sveini sé legið á hálsi fyrir að hafa verið fylginn sér í athugunum sínum og jafnvel sést mótmæla tengslum stjórnmálanna og fjármálanna. Ríkisstjórnin verður að koma með sannfærandi rök um að ekki sé verið að setja Svein Margeirsson úr nefndinni vegna þessa. Hér nægir ekki tal um frændsemistengsl ...Og hvað með Reykjavíkurborg? Ætlar stjórnarmeirihlutinn í Reykjavík að kæfa rannsóknartillögu Þorleifs Gunnlaugssonar eða gera hana að engu með útvötnun? Með því verður fylgst. Og þá ekki síst hvaða ...
10. Ágúst 2010
Birtist í Fréttablaðinu 09.08.10.

...Það sem fór mest fyrir brjóstið á þeim sem gagnrýnt hafa grein mína, því Anna Margét Guðjónsdóttir er ekki ein á báti, er einkum tvennt. Í fyrsta lagi að ég notaði hugtakið lífsrými, í því samhengi að Evrópusambandið sæktist eftir því að stækka áhrifasvæði sitt og síðan hitt að ég varaði við því að Íslendingar létu glepjast af fjárveitingum sem þegar hafa verið boðaðar til að liðka fyrir í „aðlögunarferlinu" sem nú á sér stað, áður en ákvörðun er tekin um aðild, nokkuð sem ég hef gagnrýnt og varað við áður, meðal annars á síðum þessa blaðs. Sagan kennir að frá örófi alda hafa staðið átök um auðlindir heimsins og er augljóst dæmi um slíkt ekki fjær okkur í tímanum en ...
9. Ágúst 2010

...En öðru máli gegnir þegar reynt er að gera skrifin tortryggileg á forsendum gamalkunnrar formúlu: Reductio ad Hitlerum einsog Egill Helgason gerir. Hann skýrir formúluna út fyrir okkur á þann veg
„... að siðsamlegum rökræðum ljúki þega menn fara að bera andstæðinga sína saman við nasista." En hvað er hann sjálfur að gera gagnvart þeim sem þetta ritar? Að ekki sé minnst á þá sem síðan stökkva upp í vagn hans, sveia þar og formæla, tala um illt innræti og rægitungur, en hafa ekkert málefnalegt til umræðunnar að leggja. Þessi reynsla kennir mér hvað við er átt þegar sagt er að siðsamlegri rökræðu ljúki...
8. Ágúst 2010
...Ég vil skrifa þér nú vegna viðbragða á netinu við Morgunblaðsgreininni um Evrópusambandið sem birtist í vikunni og hefur valdið nokkrum styr. Sjálf er ég ekki Evrópusinni aðallega vegna þess að ég er ekki heimsvaldasinni. Ég hef ekki trú á því að ríkar Evrópuþjóðir eigi að rotta sig saman í viðskiptalegum hagsmunamúr og beita stofnunum eins og Alþjóðaviðskiptastofnuninni og öðrum viðlíka til að halda fátækari hluta heimsins fátækum. Íslenskir Evrópusinnar eru þó flestir meira fyrir að lýsa ESB sem friðarbandalagi en líta framhjá því að þetta er eðlilegt framhald nýlendustefnunnar þar sem innflutningur frá fyrrum nýlendum er tollaður hátt ef um er að ræða unnar vörur, en framleiðsla sambandsins er niðurgreidd til útflutnings til sömu svæða. Að sjálfsögðu getur alþjóðlegt samstarf verið göfugt og gott en það þarf ekki að vera það. Það er einmitt það sem grein Rompuys frá í vor sannar. Þar setti hann nokkuð afdráttarlaust að heiminum er skipt upp í flokkana „við" og „hinir" (eins og þú bentir á í þinni grein) þar sem „við" stefnum að því að vera rík forréttindastétt. Mér fannst þetta frekar ...
Birna
8. Ágúst 2010
Ótrúleg eru viðbrögðin við grein þinni um Ísland og ESB. Greinilega er mikill vilji til að leggja allt sem þú segir út á versta veg. Mér fannst varnaðarorð þín í tíma töluð. En eitthvað truflar þetta þá sem eru að draga upp þá mynd að allt sé þetta óskaplega faglegt með endalasusum úttektum og undirenfndum þegar í reynd verið er að fjallla um pólitíska hagsmuni. Það er líka staðreynd að það sem okkur var sagt að ættu að vera viðræður er í reynd aðlögunarferli með tilheyrandi styrkveitingum til að smyrja gangverkið. Má ekki segja þetta? Þarf að sitja undir því þegjandi að ...
Jóel A.
8. Ágúst 2010
..Takk fyrir pistilinn sem ég hef beðið eftir allan daginn :) Ég hafði ákveðnar grunsemdir en eftir lesturinn get ég séð að það er nánast ómögulegt að við getum verið í sama flokki. Sem "einfaldur indjáni" í þínum flokki hef ég tvo valkosti. Hlusta á hræðsluáróður þinn og Davíðs Oddssonar eða að taka málefnalega afstöðu þegar samningur liggur fyrir. Því miður virðist sem lífsrými þitt og ritstjóra Morgunblaðsins fylli fullmikið fyrir minn smekk og þess vegna hef ég ákveðið að segja skilið við Vinstri Græna og mun á morgun segja mig úr flokknum.
kv. S.
7. Ágúst 2010
...Við sem erum andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið erum iðulega sökuð um einangrunarstefnu og jafnvel þjóðrembu. Í mínum huga er ekkert fjær sanni. Hvað einangrunarstefnuna áhrærir tel ég einmitt vafasamt að einangra Ísland innan múra Evrópusambandsins. Við eigum að staðsetja okkur sem sjálfstætt smáríki, sem nýtur verndar og virðingar heimsins alls. Af þessari sýn okkar hafa ráðandi fjármálaöfl innan Evrópusambandsins áhyggjur...
6. Ágúst 2010

...Umfjöllun mín hefur greinilega haft talsverð áhrif á blóðþrýsting hjá hópi manna. Á netinu er margt látið flakka og mesta ákafafólkið lætur það ekki trufla sig þótt það hafi lesið hvoruga greinina, hvorki þá sem Van Rompuy ritaði eða mína. Það er eins og gengur. Hins vegar er margt ágætlega sagt í netskrifunum...Það sem vekur athygli mína er hve viðkvæmir sumir skríbentar, sem harðast gagnrýna mig, eru fyrir tvennu. Í fyrsta lagi að ég skuli vísa til nýlendutónsins í boðskap forseta framkvæmdastjórnar ESB og hvernig hann reynir að höfða til Íslendinga með því að „selja" okkur stórveldið ESB. Þessu svara ég á þá lund ég telji okkar hagsmunum betur borgið sem sjálfstæðu ríki utan ESB með forræði yfir auðlindum sínum og samfélagi. Hitt sem hreyfir við fólki er tilvísan í hugtakið „lífsrými"...
6. Ágúst 2010
Eftir að hafa horft upp á allan loddara-spuna ríkisstjórnar VG og Samfylkingar og valdbeitingu hennar til dýrðar AGS, sem Baldur Andrésson lýsir ágætlega í grein sinni "UM SKÚFFUR OG SKÖMM", þá leitar hún nú ákaflega á mig spurningin: Hvernig getur þú eiginlega stutt þessa ríkisstjórn ál-fursta, sæ-greifa, fjárglæpamanna, hrægamma og AGS? Þessi ríkisstjórn getur skreytt sig með hvaða orðaleppum sem er, en að mínu mati er þetta dæmigerð hægri-stjórn með ríkis-valds-vafningi! Er ekki mál að linni Ögmundur? Og að hér verði boðað til kosninga, enda hefur þessi stjórn ekki ...
Pétur Örn Björnsson
4. Ágúst 2010
...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...
3. Ágúst 2010

...Nú bregður svo við að þrátt fyrir útskýringar mínar, sem ég hygg að séu dæmigerðar fyrir aðra félaga mína í VG sem vilja ítrustu varfærni hvað varðar frekari fjárútlát til fjármálakerfisins úr vösum skattborgara, leitar pressan.is í dag álits hjá Þórólfi Matthíassyni, háskólakennara í hagfræði, um afstöðu okkar. Án þess að kynna sér málið frekar kveður Þórólfur upp stóradóm ...Engar kröfur á ég á hendur Þórólfi Matthíassyni. En kannski má biðja um ögn meiri yfirvegun af hans hálfu; að hann geri það sem hann leggur til gagnvart öðrum: Hugsi áður en hann talar...
2. Ágúst 2010

Svo er að skilja á fréttaumfjöllun að ég, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum VG, muni ekki ljá máls á því að setja meira fjármagn inn í bankakerfið því til bjargar ef til þess þyrfti að koma og er í þessu efni stuðst við yfirlýsingar sem ég gaf fyrir skömmu á Bloomberg vefnum. Einhvers staðar sá ég hlakkað yfir því að þar með væri ríkisstjórnin hugsanlega fallin! Svo einfalt er þetta mál ekki. Það er hárrétt haft eftir hjá Bloomberg að ég er í...
2. Ágúst 2010

Skýringar eru misvísandi á því hvers vegna mörg ríki, þar á meðal Ísland, hafi setið hjá við atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum, um að tryggja vatn sem mannréttindi....Maude Barlow, hin þekkta kanadíska baráttukona, sem m.a. hefur gegnt ráðgjafastörfum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á sviði þessa málaflokks, segir samþykkt tillögunnar vera mikilvæg tímamót fyrir alla þá sem vilja réttlæti á þessu sviði ...Maude Barlow telur að ágreiningurinn sem fram kom við atkvæðagreiðsluna í eigi rót að rekja til mismunandi grundvallarafstöðu, annars vegar á afstöðu þeirra þjóða sem vilja telja vatn til almannagæða og mannréttinda og svo hinna sem vilja markaðsvæða vatnið...Þessi ólíka grundvallarafstaða hafi síðan ...
31. Júlí 2010
Þú segir í pistli þínum um vatnið og atkvæðagreiðsluna hjá SÞ að auðhringurinn Bechtel hafi jafnvel viljað meina fólki að nýta sér rigningarvatn í Bólívíu og segist hafa fjallað um það hér á heimasíðu þinni. Legg til að þú látir slóðir fylgja. Ég leitaði og fann þessa:
http://ogmundur.is/annad/nr/3239/. Ég sé að á eyjunni (eftir ágæta umfjöllun þar) og víðar bloggar fólk um þessi skrif þín og setur í samband við meinta stjórnarandstöðu. Við sem höfum fylgst með þessari síðu og skrifum þínum annars staðar um þetta og tengd málefni í mörg ár ef ekki áratugi, hlæjum að slíku rugli. Það gera líka reyndar ...
Grímur
31. Júlí 2010
Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010

...Eitt af því sem hefur valdið deilum á alþjóðavettvangi er hvort yfirlýsing af þessu tagi - sem segir aðgang að vatni vera mannréttindi - gæti strítt gegn markaðshagsmunum; stangast á við kröfur sem ríki höll undir fjármagnið vilja ætíð halda á lofti um rétt fjárfesta til gjaldtöku fyrir vatn. Það er eitt að greitt sé fyrir afnot af vatnsveitum hóflegt gjald byggt á hugmyndum um almannaþjónustu, annað er heimila fyrirtækjum að gera vatn að gróðalind... Þetta þekkjum við frá snauðum þriðjaheimsríkjum þar sem fyrirtæki hafa fengið einkarétt á vatnsveitum og haldið því fram að það stangaðist á við lög þegar almenningur nýtti sér rigningarvatnið neyslu! Þetta er ...
30. Júlí 2010
... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur
29. Júlí 2010
...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010

Í bréfi til síðunnar vekur Ólína athygli á grein eftir Styrmi Gunnarsson, fyrrum Morgunblaðsritstjóra sem birtist í Sunnudags-Mogga um síðustu helgi undir fyrirsögninni
Magmadeilan snýst um grundvallaratriði. Ólína tengir umfjöllun Styrmis uppgjöri hans við liðinn tíma og beinir þeirri spurningu til mín hvort í viðhorfum hans kunni að leynast vegvísir til uppgjörs í flokkakerfinu sem og „í siðferði atvinnulífsins." Þessu er til að svara að ég tel...
29. Júlí 2010
...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K
28. Júlí 2010
Birtist í Fréttablaðinu 27.07.10.

...Nokkur umræða spannst þessa daga opinberlega og sat ég meðal annars fyrir svörum ásamt Ross Beaty í Kastljósi sjónvarpsins þar sem ég ræddi um skúffufyrirtæki hans. Fyrir dyrum voru sveitarstjórnarkosningar. Ýmsum þótti slæmt að ræða pólitísk hitamál landsmálanna opinberlega og forsætisráðherra kvað upp úr um að ágreiningsefni ætti ekki að bera á torg...Bergsteinn er ekki einn um að saka okkur um ...að sofa á verðinum og stundum er spurt hvers vegna menn hafi ekki sett fram lagafrumvörp og stöðvað þessi mál. Í fyrsta lagi þá hefur það verið reynt. Í öðru lagi snýst þetta um meirihlutavilja í ríkisstjórn og á Alþingi. Ef hann er ekki fyrir hendi þá hreyfist ekkert. En þjóðfélagið getur hreyft þann vilja. Og þjóðfélagið er að vakna...
27. Júlí 2010
...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur
24. Júlí 2010
Birtist í Fréttablaðinu 23.07.10.

...Hins vegar sækja á mig vaxandi efasemdir um EES. Bæði tel ég samninginn hafa að ýmsu leyti verið til mikillar óþurftar og að margt í hruninu megi rekja til markaðsáráttu ESB. Verra er þó ótrúlegt andvaraleysi sumra alþingismanna þegar EES er annars vegar. Ef sagt er að tiltekin fyrirhuguð lagasetning byggi á tilskipun frá Brussel, þagna menn. Málið skoðast afgreitt. Í þessari afstöðu er fólgið alvarlegasta valdaafsalið. Sjálfur hef ég margoft fengið að reyna, þegar ég hef sett fram efasemdir um EES samninginn, að ...
24. Júlí 2010
...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún
24. Júlí 2010
...Jón Þórisson bendir á að Magma braskarinn eigi að fá kaupverðið að mestu að láni hjá íslensku bönkunum í formi kúluláns með einungis 1,5% vöxtum. Verður það til þess að bæta hag þeirra? Til samanburðar hefur verið rætt um að við getum ekki vænst lægri vaxta en 5,5% vegna óreiðu Sjálfstæðisflokksins á liðnum árum við að koma í veg fyrir að Icesave vitleysan hefði komið okkur í þann bobba sem kunnungt er og er sú deila enn galopin og ekki verið tekin nein ákvörðun um það. Orkulindir landsmanna hafa verið ...
Guðjón Jensson Mosfellsbæ
24. Júlí 2010
Ég verð að játa það að athugasemd Hafsteins um Álfheiði er mjög áleitin, vægast sagt. Hitt sem ég vildi nefna er að mín upplifun er að komið er að vissum þáttaskilum í tilvist Vinstri Grænna. Ef Vg setur sig ekki eindregið á móti Magma málinu hefur pólitískur grundvöllur Vg brostið. Ályktanir duga ekki heldur verk. Magma málið sker línu í sandinn hverjir skilja og vilja vera Íslendingar fyrir Íslendinga.
Gunnar Skúli Ármannsson
24. Júlí 2010
Ljóst er að okkar nýi atvinnumálaráðherra verðandi, Jón Bjarnason, hefur enn einu sinni sýnt að hann stjórnast ekki af fyrirfram forritaðri hugmyndafræði og vangaveltum framlagðri af lénsherrum sem ekki kæra sig um uppskiptingu valdsins. Það var jú í uppleggi samstarfsflokksins að uppræta eða innkalla kvótann í áföngum, ef þessi ráðstöfun mála hjá Jóni sýnist mönnum birtast sem innköllun, þá hlýtur það að vera samstarfsflokknum þóknanlegt. Ég ætla svo bara rétt í lokin að vona að Jón sé ekki í útskiptihugmyndum flokksins til framtíðar, það teldi ég bera vott um að verri hagsmunum væri þjónað. Ég ítreka það síðan, að sá flokkur sem lýsir yfir afturköllun á aðildarumsókninni...
Kv. Óskar K Guðmundsson fisksali.
24. Júlí 2010
...Vinstri grænir gagnrýndu á sínum tíma að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skyldi, í ljósi stórskuldugs eiginmanns, taka þátt í umræðum bak við luktar dyr um efnahagsviðbrögð í kreppu og ...Getur verið að eiginkona lögmanns Lýsingar sitji alla fundi ríkisstjórnar þar sem menn leggja á ráðin í myntkörfumálinu, með og án Seðlabanka og Fjármálaeftirlits? Samfylkingarfugl hvíslaði þessu að mér og var mikið niðri fyrir þótt ekki fari ég útí það sem hún sagði um þetta að sinni...
Hafsteinn
23. Júlí 2010

... Í dag birtist skýr og skelegg grein eftir Jón Þórisson, arkitekt og aðstoðarmann Evu Joly, í Fréttablaðinu sem ég hvet alla til að lesa. Hann er í hópi fólks sem gengið hefur fram fyrir skjöldu í baráttu fyrir samfélagslegu eignarhaldi á orkuiðnaðinum og ber að þakka honum, aðkomu okkar ástsælu Bjarkar, Oddnýjar Eir Ævarsdóttur ber einnig að þakka og margra annarra að undanförnu. Það er ómetanlegt fyrir samfélagið að eiga þetta kröftuga fólk að og mætti nefna mörg fleiri nöfn, svo sem Láru Hönnu Einardóttur sem bloggar reglulega á Eyjuna og Sigrúnu Davíðsdóttur sem hefur verið með frábæra pistla í RÚV. Áfram mætti telja. Að vísu ekkert mjög lengi. Þeir eru nefnilega ekki óteljandi fréttamennirnir sem...
23. Júlí 2010
...Allan þennan tíma hef ég talað fyrir þunnum eyrum á vettvangi atvinnulífsins er ég hef sagt frá þeirri skoðun minni að greiðslur launamanna í lífeyrissjóði væru hreinar skattagreiðslur, enda lögbundnar ...Það er enginn vafi á því, að það væri mikið hagkvæmara fyrir launamenn að í landinu væri einn lífeyrissjóður í vörslu t.d. tryggingastofnunar og allir landsmenn greiddu í hann með sínum tekjusköttum. Bara það, að ef ríkissjóður fengi tekjuskattstekjur af þessum 16% er það eitt og sér gríðarlega há upphæð og væntanlega myndu skattahækkanir vegna þessa fyrirkomulags vera mun lægri en greiðslur launamanna eru nú í þessa spillingarhýt.
Launamenn báðu ekki um lífeyrisjóðakerfi á 7. áratugnum, þeir kröfðust eftirlaunakerfis og það er ...
Kristbjörn Árnason
22. Júlí 2010
... Ykkar ... allra ... er sektin! Þannig verður "tæranníið" til í valdakerfinu ... þegar hinir opinberu á ríkis-verð-tryggðum launum og lífeyri í stíl ... aðhafast ekkert ... bara þegja þunnu hljóði eða mala svona pínulítið til okkar sem lepjum dauðann úr skel ykkar. Spurning 2, 3, 4, 5: Er nú ekki lag að reka af sér slyðruorðið Ögmundur? Eða passar það ekki opinberum starfsmanni að hræra of mikið upp í rjómaskálinni? Kallast það til vinstri í dag? Kannski grænt í myglu rjómans?
Pétur Örn Björnsson
22. Júlí 2010
...Björgólfur Thor hefur náð samningum um lendingu 1200 milljarða og ætlar að efna þá á næstu fimm árum. Þetta þýðir að á hverjum mánuði þarf hann að reiða fram kr 20 milljarða og hefur þá ekki verið tekið tillit til vaxtafærslna, en með varúðarfærslu eru þeir aldrei undir 2,25 prósent sem gera rúma 5 milljarða á ári. Björgólfur er stórhuga maður og hefur margoft sýnt það í viðskiptum sínum, eins og með actavis, play, ccp og nú síðast gagnaver verne holdings, allt eru þetta fyrirtæki sem eru með hvað hæsta framlegð hvert á sínum vetvangi. Hins vegar stingur það mann í augu þegar sú staðreynd er viðblasandi að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
22. Júlí 2010
...Ég held því fram að öll þjóðin beri ábyrgð á gjaldþroti Íslands, bæði lýðræðislega ábyrgð og einnig þá ábyrgð sem fólst í því að njóta mikils kaupmáttar. Það er komið að skuldadögum ...Við féllum á fyrsta prófinu með því að neita að standa við skuldbindingar okkar í Icesave-málinu, en þar á forseti Íslands meiri sök en aðrir. Við verðskuldum víst svona forsetafígúru. ...Þó ríkisstjórnin hafi ekki komið mikilvægasta málinu í endurreisn Íslands í gegn, Icesave, hefur hún gert margar réttarbætur sem hefðu verið óhugsandi með Framsókn eða Sjálfstæðisflokki við stjórnarvölinn, eins og t.d. lögin sem heimila kyrrsetningu eigna. Ábyrgð öfgahópsins innan VG, sem ekki greinir á milli auka- og aðalatriða, verður því nokkur þegar hann fellir ríkisstjórnina...
Pétur
21. Júlí 2010
Matsfyrirtækið FITCH hefur áhyggjur af íslenska fjármálakerfinu, eða þeim sem eiga kröfur á hina föllnu banka eftir að hafa lánað þeim ótæpilega í nokkur ár. Ekkert undarlegt við þessa afstöðu, og ekkert undarlegt við ríkisútvarpið sem tók viðskiptaráðherrann tali vegna þessa. Yfirgangur ráðherra er slíkur, að sá sem ber ábyrgð á honum í ríkisstjórn, þarf alvarlega að fara að hugsa sinn gang. Í dag var viðskiptaráðherra spurður um FITCH drengina. Látum ráðherra tala um dómskerfið og FITCH: "Það kemur nú svo sem ekki á óvart að matsfyrirtækin skuli hafa áhyggjur af þeirri stöðu sem komin er upp. Auðvitað er þessi óvissa um það hvernig verður farið með öll þessi myntkörfulán á endanum mjög óþægileg." (Hádegifréttir RÚV 19.07 2010) Síðan er sagt frá því að ...
Ólína
21. Júlí 2010
Íslensku bankarnir grófu sér sína eigin gröf og margra viðskiptavina sinna og urðu gjaldþrota. Nýju bönkunum stjórna þó enn margir þeirra sem í þeim eldri sátu og flestir starfsmanna eru úr gömlu bönkunum. Þar ríkir því miður enn sami hrokinn og áður gagnvart þeim sem standa illa. Þar er veifað framan í menn keyptum upplýsingum frá skítafyrirtækjum eins og Lánstrausti og sagt...Hvernig væri nú að Lánstraust tæki saman afrekaskrá fyrir almenning um rekstur bankanna á síðustu árum og þar yrðu tíunduð nöfn stjórnenda og starfsmanna sem sátu í þeim fyrir þrot og eftir þrot? Hvers vegna ættum við að eiga viðskipti við þetta fólk? Ekki virðist það hafa ...
Jóhann G. Frímann
21. Júlí 2010
Ögmundur, hvenær ætlar restin að þinghópi VG sem varð fyrir SMS skilaboðunum og öðrum hótunum í aðdraganda ESB atkvæðagreiðslunnar að vakna og gangast við þeim? Er ekki komin tími til að talað sé tæpitungulaust um þessi mál og að menn hætti að meðhöndla þetta mál sem eitthvað tabú sem ekki má ræða opinskátt, er undirlægju hátturinn við Samfylkinguna svo mikill að þingmenn VG skríði í felur þegar þetta er rætt opinberlega og þegja þunnu hljóði í stað þess að gangast við málinu. Í stað þess koma ...
Rafn Gíslason
19. Júlí 2010
Það verður spennandi að fylgjast með hvort Steingrímur J Sigfússon, Jón Bjarnason, Katrín Jakobsdóttir og Álfheiður Ingadóttir skrá sig með þeim sem vilja halda orkuauðlindunum í eigu þjóðarinnar. Ég efast ekki um Svandísi Svavarsdóttur. Hún er búin að tjá sig. Spurning með Svavar. Ef til vill óþægilegt fyrir Breta og Hollendinga. En Össur "Eitt Kína" mun sjálfsagt vera upptekinn á ferðalögum við að útvega verkfræðistofunni Mannviti verkefni í Sómalíu. Fyrir Kínverjana sem eru að eigna sér auðlindir í Afríku.
Hreinn K.
19. Júlí 2010
...En það sem gleður mann mest og það sem mikilvægast er, er að hann gefur út frjálsar rækjuveiðar. Rækjukvóti hefur á undanförnum árum verið notaður sem skiptimynt fyrir aðrar tegundir, eða s.s. þorskígildi. Ég vil hér með nota þennan samskiptavef þinn Ögmundur sem er bæði vinsæll og mikið er vitnað í til að koma fram þakklæti til Jóns Bjarnasonar sem sýnir með úthlutun kvóta fyrir árið 2011 að vilji hans er mikill til að breyta núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi til sanngjarnari og betri háttar....
Ágúst
18. Júlí 2010

Í mínum huga leikur enginn vafi á því að almeningur á Íslandi - yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar - er andvígur því að selja auðlindirnar í hendur fjármálamanna og veita þeim yfirráð yfir þeim hvort sem í formi beins eignarhalds eða ráðstöfunarréttar til mjög langs tíma. Nákvæmlega það mun þó gerast með orkuauðlindir Reykjanesskagans ef ríkisstjórnin grípur ekki í taumana strax. Um aðgerðarleysi í þessu máli mun aldrei verða sátt. Til marks um að þjóðin sé að vakna til vitundar um hve brýnt það er að stöðva einkavæðingu orkuiðnaðarins er undirskriftasöfnun sem hrundið hefur verið af stað á netinu: http://orkuaudlindir.is/ ....
18. Júlí 2010
...Þessar spurningar vakna í kjölfar fréttar um að Björn Valur þingmaður VG teldi að ekki væru til peningar hjá ríkinu fyrir orkuveri. Er það virkilega svo að við eigum ekki aura fyrir undirstöðu atvinnuvegum okkar. Ég minnist ekki að blankheitum hafi verið borið við þegar mokað var fé í tryggingafélagið Sjóvá. Ef við höfum ekki efni á því sem við byggjum afkomu okkar á, hver er þá framtíðarsýn þingmannsins og annarra þingmanna VG? Varla Evrópusambandið eða hvað? Að lokum, er ekki...
Húsmóðir í austurbænum
16. Júlí 2010
Fyrir alllöngu síðan fannst mér að sökum ýmissa afleikja ríkisstjórnarinnar væri fokið í svokölluð flest skjól. Með ótrúlegum klókindum hefur stjórninni þó tekist að skríða inní nokkur slík kennd við skálka. Þar er þó ekki hægt að hírast lengi enda efniviður slíkra skjóla ótraustur sakir fúinna haldreipa. Aftansöngur ríkisstjórnarinnar er hafinn það er held ég flestum sem eitthvað eru læsir á stöðuna nokkuð ljóst. Þar sem mörgum þykir gott að hlusta á aftansöng, ber þeim þó saman um að hann megi ekki vera of langur. Þess vegna kalla ég eftir ábyrgum og öflugum aðilum til að hefja viðskilnaðarferlið. Ég ætlast til að þú Ögmundur verðir þar stafnvörður. Ég ætlast til að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali.
16. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifaði: "Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig komið er. Ríkisstjórn sem ekki grípur inn í þennan feril á afgerandi hátt þannig að HS orka komist aftur í almannaeigu er ekki að gæta almannahagsmuna." Og ég er honum algerlega sammála. Stærsta vandamál okkar er að núverandi ...
ElleE
16. Júlí 2010
Birtist í Fréttablaðinu 15.07.10.

...Inn í þennan málatilbúnað fléttar Hannes svo hrun nýfrjálshyggjunnar og vísar þar sérstaklega í Davíð Oddsson, sem hann kallar fallinn „Móses Sjálfstæðisflokksins". Grein sína botnar skáldið með því að horfa á eftir Lilju Mósesdóttur og þessum meinta Móses þeirra Sjálfstæðismanna ganga „hönd í hönd inn í hamingjunnar lönd" ...Aldrei hefur verið brýnna en einmitt nú að efna til markvissrar umræðu um handfasta hluti í stað þess að blanda í einn kokteil alls óskyldum málum í óljósu líkingatali einsog sá mæti maður Hannes Pétursson óneitanlega gerir í grein sinni. Það má vel vera að Davíð Oddsson og Lilja Mósesdóttir deili ýmsum skoðunum, einsog þeirri að hafa efasemdir um aðild Íslands að Evrópusambandinu. En að gera þau að ...
15. Júlí 2010
Ríkisútvarpið, sem þú verð langt út fyrir hið óendalega, kemur þrátt fyrir allt ennþá á óvart. Í morgun heyrði ég tvo snillinga setja á dagskrá hugaróra lagastúdents úr Háskólanum. Aflaði mér upplýsinga um manneskjuna í dag og mér er sagt að hún sé innundir hjá Samfylkingunni og tengist henni meira en margur annar. Snillingarnir, umsjónarmennirnir á Rás 2, ræddu við samfylkingarkonuna um yfirvofandi klofning í VG og kosningar í haust. Kostulegt var að fylgjast með útleggingunum og spurningafæð umsjónarmannanna. Engu var líkara en hér væri kominn grínari, sem ætti sér þann draum heitastan, að verða á landsvísu það sem leiðtogi Besta flokksins er í Reykjavík. Makalaus umfjöllun. Þetta er eins og mæta í útvarp allra landsmanna og segjast hafa heyrt að Samfylkingin sé að klofna. Annars vegar séu ...
Jóna Guðrún
14. Júlí 2010
..Þessi stjórn lafir á þeirri ógn einni að íhaldið taki við fari hún frá. Stuðningsmenn hennar hafa þverrandi trú á verkum hennar heldur byggir stuðningurinn á óttanum við sameiginlegan óvin. Ráðleysið í þessu gengistryggingarmáli er ekki úrslitamál heldur einn naglinn til viðbótar í kistuna. Þessi stjórn er ekki á vetur setjandi og trúlega veit hver einasti kjósandi það í hjarta sínu. Það sem meira er, þá tel ég að æ fleiri séu orðnir leiðir á að láta þennan óttaáróður stjórna bæði tilfinningalífi sínu og stjórnmálaskoðunum og hætta að ríghalda sér í stjórnfyrirkomulag sem ræður aðeins við það eina verkefni að...
Árni V.
14. Júlí 2010
...Ég er að vinna hjá Ístaki á Grænlandi. Hér hafa verið og verða á næstu árum miklar framkvæmdir sem við höfum tekið þátt í og verðum sennilega þátttakendur í framtíðinni. Þetta er eitt af því sem gerist þegar heimurinn minnkar og fólk fer að hreyfa sig í áttina þar sem vinnu er að fá. Mundu bara eitt. Mest fátækt er þar sem fólk hefur hreiðrað um sig og vill ekki vegna átthagafjötra ýmissa fara til að leita af gæfunni. Við sjáum dæmi um hið gagnstæða í USA. Evrópusambandið er öðrum þræði ætla til að hrista uppí vinnumarkaði sem vill helst vera staður og óhreyfanlegur. Það er ekki svarið fyrir komandi kynslóðir...
Ágúst Ingi
14. Júlí 2010
Hvað ef Magma Energy Sweden Aktie Bolag væri ekki skúffufyrirtæki? Er það eitthvað betra? Segðu okkur frekar hvernig við eigum að leysa málið í stað þess að benda á skúffur og skrifborð. Þessi Suðurnesja orkufyrirtæki voru að setja mörg bæjarfélög á hausinn. Hvað á að koma í staðinn? Ríkið má ekki eiga þau vegna EES. Innlendir fjárfestar virðast ekki hafa fé til þess eða eru svo græðgissjúkir að þeim er ekki treystandi. Svo er þessi frétt frá ...
Þorgeir Jónsson
14. Júlí 2010
Ég er fullkomlega sammála þér þegar þú segir að staða Magma á Íslandi sé byggð á skúffufyrirtæki og loddaraskap og að það eigi að stöðva kaup þess á HS Orku, og banna því starfsemi á Íslandi! Ég er sammála Svandísi Svavarsdóttur um að ólöglegur loddaraskapurinn nái langt inní ríkisstjórn Íslands! Ég er sammála Atla Gíslasyni að VG hafi brugðist skyldum sínum í ríkisstjórn gagnvart Magma! Ásamt á fjölda öðrum sviðum! Ég er sammála Björk Sigurgeirsdóttur að það eigi að banna eign og starfssemi Magma Energy á Íslandi þar sem það er byggt á svikum og farið sé á svig við íslensk lög! Ég virði viðleitni Margrétar Tryggvadóttur að vilja ...
Helgi
13. Júlí 2010
Alveg magnaðir sleggjudómar hjá þér Ögmundur,ef rétt er haft eftir þér að hálaunafólk skuli borga meira eða koma sér í burtu af eyjunni ÞINNI !! grænu. Ég og konan mín erum bæði með háskólagráðu, ég kláraði fyrir tveimur árum síðan, við erum skuldug uppfyrir haus af verðtryggðum námslánum og vorum ekki að græða á 2007 bólunni. Nú er ég að fara að borga af öllum þessum lánum sem ég tók á námsárunum til að mennta mig, en nei ríkið vill sitt og þú talar niður til okkar sem finnst nóg komið. Segir að ef við mótmælum getum við bara komið okkur burtu. Maður með milljón á mánuði borgar núna um ...
Guðfinnur
13. Júlí 2010
....Það hefur oft hvarlað að mér að stíga skrefið til fulls og flytja alfarið til Noregs, borga mína skatta og skyldur þar. En ég hef ekki gert það enn. Þau skilaboð sem ég vil beina til þín er að fara varlega í að hækka skatta á ungt hátekjufólk sem flokkast undir hátekjufólk vegna þess að það er mjög duglegt að vinna og færir miklar fórnir (fjöldskylda mín og nýfætt barn býr til að mynda á íslandi). Það er nógu erfitt fyrir ungt fólk að standa í skilum í dag með stökkbreytt lán hvort sem þau eru gengistryggð eða verðtryggð. Stjórnvöld hafa verið svolítið gjörn á að velta skuldabagganum á þennan þjóðfélagshóp...
Guðjón Örn
13. Júlí 2010

Unnur Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, segir mig hafa farið með rangt mál í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld og segir að ég hafi fullyrt að íslensk lög heimili ekki að erlendir aðilar eigi í orkufyrirtækjum hér á landi...Í greinargerð með lögum um erlendar fjárfestingar segir m.a.: ...
Ástæðan fyrir því að íslenskt atvinnufyrirtæki undir erlendum yfirráðum er í frumvarpinu skilgreint sem erlendur aðili er sú að þannig á að reyna að girða fyrir að erlendur aðili geti farið bakdyramegin inn á svið þar sem fjárfestingu erlendra aðila eru skorður settar. Ella gæti erlendur aðili fyrst stofnað eða fjárfest í atvinnufyrirtæki hér á landi sem þar með teldist íslenskur aðili og það fyrirtæki síðan fjárfest á umræddu sviði.....
11. Júlí 2010
Það er einkennilegt að nú loksins eftir að í ljós kom hvernig saumaskap og frágangi á lausum endum var fyrir komið af hálfu iðnaðarráðherra að þá skuli loksins haldið á lofti að nú muni reyna á flokkssamþykktir um auðlindir í eigu þjóðar. Væri ekki eðlilegt að slíkt hefði verið gert í upphafi málsins. Menn vissu að um skúffuna góðu var um að ræða. Það þýðir lítið í mínum huga að öskra og veina og benda á iðnaðarráðherra, það má vera að hún hafi setið á svikráðum við þjóðina og kortlagt aðferðafræðina en ennþá lélegra þykir mér að málinu skuli samt sem áður vera veitt fullt brautargengi af hálfu VG og það þykir mér vera hroðaleg handvömm....
Óskar K Guðmundsson, fisksali
11. Júlí 2010
....Vildi bara benda þér á þetta ef að þú hefur ekki séð þetta. Vill spyrja þig líka hvort að þú getir lifað með sjálfum þér ef þetta fer í gegn og þinn flokkur er við völd?
Atli Steinn
11. Júlí 2010
Ögmundur, í pistlinum þínum: HVERS VEGNA EKKI FYRSTA FRÉTT, segirðu: "Að lokum: Er baráttan gegn Magma Energy Sweden vegna sviksemi fyrirtækisins einvörðungu? Nei, en sviksemin ein er nægilega ástæða til að rifta kaupunum. Hitt er morgunljóst í mínum huga að orkuauðlindir verða ekki nægilega tryggðar sem þjóðareign ef ráðstöfunarrétturinn er með þeim hætti sem nú er. Fráleitt er annað en að stærstu orkufyrirtækin verði í almannaeign. Hvers vegna í ósköpunum ættum við að gefa frá okkur mjólkurkýrnar? Þegar það er gert - og í ofanálag í hendur - loddara, þá verður mér spurn: Hvers vegna er þetta ekki fyrsta frétt?"
Ég vil taka undir hvert orð. Nú hefur komið fram í fréttum að ...
ElleE
9. Júlí 2010

Í fjölmiðlum í dag eru fréttir af svikamálum gærdagsins. Kyrrsetning eigna og málaferli. Vissulega fréttnæmir atburðir. Svikamál samtímans eiga nú sem fyrr erfitt uppdráttar í fjölmiðlum. Sagt er frá klofningi í nefnd sem fjallar um lögmæti þess að erlent fyrirtæki, Magma Energy Sweden, kaupi þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins og öðlist ráðstöfunarrétt á orku í iðrum jarðar í heilum landshluta. Hvers vegna... Vefmiðillinn eyjan.is státar af frábærum pistlum
Láru Hönnu Einarsdóttur. Þar er þessu máli gerð frábær skil, m.a. rannsóknarvinnu
Teits Atlasonar...
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG hefur aldrei látið deigan síga í þessari baráttu og birti hann í gær grein hér á síðunni um þetta efni þar sem hann beinir spurningum til ríkisstjórnarinnar...
9. Júlí 2010
Í janúar 2006 þegar gagnrýnir menn fóru að óttast um bankana, íslenska fjármálakerfið, héldu systurnar Viðskiptaráð og ríkisstjórnin því að mörlandanum að fjármálasnillingar riðu um héruð bæði hér og um víða veröld. Framtíðin var björt og Halldór Ásgrímsson, sem rannsóknarnefnd Alþingis talaði ekki við ef marka má viðmælendalista nefndarinnar, hélt ræðu .... Í þessu sambandi ályktaði bankaráð eins stórbankans ...að mörlandinn þyrfti að fara að tala ensku. Enska skyldi verða háskólamóðurmálið og öll bankaviðskiptin skyldu fara fram á ensku. Sumir menn, sparsamir, þorðu lengi vel ekki að fara í banka í Reykjavík af ótta við að þurfa að gera sig skiljanlega á ensku þegar þeir ætluðu að taka út þúsundkall. ...Kemur það ekki á óvart, að hinir miklu enskumenn skuli nú bera við vankunnáttu í ensku, þegar þeir reyna, hver um annan þveran, að koma sér undan yfirheyrslum ...
Ólína
9. Júlí 2010
Að koma AGS í almenna umræðu og hvað þá gagnrýna umræðu er hægara sagt en gjört. Blaðamenn landsins virðast ekki gera ráð fyrir honum í umfjöllun sinni um íslensk stjórnmál í dag. Það virðist vera sækni þeirra í einfaldar fréttaskýringar þar sem gamli sandkassaleikurinn er hryggjarstykkið í hugsun þeirra. Þeim tekst ekki að hefja sig yfir eigin skoðanir í pólitík. Mikið væri það óskandi að þeir legðu á sig nokkra vinnu og læsu þau skjöl sem nú þegar eru aðgengileg á netinu um AGS og samstarf sjóðsins við Ísland. AGS rekur ...
Gunnar Skúli Ármannsson
8. Júlí 2010
Komdu með frumvarp, Ögmundur. Frjálsar handfæraveiðar, 15.000 manneskjur án vinnu. Sýndu þjóðini að það sé eitthvert gagn að þér.
Aðalsteinn Agnarsson
8. Júlí 2010
Í dagblöðum í dag talar þú að AGS sé á móti almennum lausnum á skuldavanda heimilanna. Þ.e.a.s. að færa niður höfuðstól lána hjá öllum. En er ekki AGS einmitt að benda á að með slíkum aðgerðum þurfi ríkið að aðstoða banka og fjármálastofnarnir eina ferða enn ef að eignir þeirra verða keyrðar niður. Hin leiðin sem AGS bendir á er ...
Hermundur Sigurðsson
8. Júlí 2010
...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...
8. Júlí 2010
Áhrif hæstaréttardóms um mynkörfulán Í fjölmiðlum er nær eingöngu talað um bílalán. Mun stærri hluti þessara lána fór samt í lán til sjávarútvegsfyrirtækja og til til skuldsettrar yfirtöku fyrirtækja á markaði. Dæmi eru um að bílar séu veðsettir fyrir allt að þrefalt markaðsvirði sitt en heimtur á bílalánunum eru líklega bestar af þessum flokkum. Það er t.d. algerlega borðleggjandi að það megi afskrifa 70% af gengislánum til yfirtöku fyrirtækja. Að þessu fratöldu eru áhrif dómsins þau að ...
Sigurður Þórðarson
8. Júlí 2010
...15.000 manneskjur eru án vinnu, það liggur á þessu. Trúðu mér, það er gott líf að róa á trillu. Það besta að ég trúi, ef Alþingi gefur frelsi.
Aðalsteinn Agnarsson
6. Júlí 2010
Hverjum hefði dottið það í hug fyrir örfáum mánuðum síðan að SKJALDBORGIN margumtalaða skyldi slegin utan um úlfagráðug fjármálafyrirtækin í landinu....Úthrópun samstarfsflokkanna er algjör. Þeir kenna sig báðir við sósíaldemókratíska hugsýn, en það skal vera á hreinu að löngu framgengnir forvígismenn þeirrar hugmyndafræði hafa marg snúið sér við í gröfum sínum, alla vega rúmaðist hugtakið knésetning öreiganna ekki innan þeirrar merkingar. Ögmundur, ég vil meina að það dugi ekki að stinga niður penna, það eru bara kurteis samræðustjórnmál, ég held að þú sért maðurinn sem munir iðka aðgerðastjórnmál framtíðarinnar. Ef það reynist ekki rétt þá er ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
6. Júlí 2010
Birtist í DV 05.07.10.

Ég er ekki í hópi þeirra sem telja að efnahagsvanda þjóðarinnar eigi að leysa í dómssölum. Að því marki sem stjórnvöld geta yfirleitt komið að málum ber að leita lausna með lögum. Þannig hefði með lögum mátt nema vísitölutengingu lána tímabundið úr gildi óðaverðbólgumánuðina í kjölfar hrunsins. Það lagði þáverandi formaður BSRB til á fundi með þáverandi oddvitum ríkisstjórnar í október 2008. Því var hafnað. Núverandi ríkisstjórn hefur einnig hafnað slíkum almennum lausnum. Ákveðið var að fara hina „sértæku" leið. Þeir sem ættu í sérstökum vandræðum skyldu fara í „greiðsluaðlögun" og teldu fólk eða fyrirtæki á sér brotið skyldu viðkomandi leita til dómstóla....Ekki á að lesa meira í þessa yfirlýsingu Seðlabankans og FME en í henni er í raun fólgið. Um er að ræða leiðbeiningar til bráðbirgða eða þar til dómstólar hafa kveðið upp sinn úrskurð....
5. Júlí 2010
Mig langar til að vekja athygli þína á þeim eðlismun sem er á mótmælunum sem efnt var til við Seðlabankann í dag og upphafi mótmælanna í búsáhaldabyltingunni. Eðlismunurinn kemur fram í þeim harða tóni sem nú er í andstæðingum fjármálafyrirtækjanna, miklu harðari tóni. Ég var á Austurvelli haustið 2008 og ég var við Seðlabankann í dag. Guð hjálpi þeim stjórnvöldum, forystumönnum VG og Samfylkingar, sem hafa egnt fyrir fólkið gildru með dyggri aðstoð Alþjóðagjaldseyrissjóðsins sem það verður svo látið lenda í. Er útilokað að þið almennir þingmenn sem segist styðja ríkisstjórnina látið sverfa til stáls, standið með fólki en ekki fjármálafyrirtækjum, og setið ...
Jóna Guðrún
4. Júlí 2010
„AGS hafði ekki haft hönd í bagga þegar Seðlabanki og Fjármálaeftirlitið ákváðu að gefa út tímabundin tilmæli um það við hvaða vexti skuli miða við útreikning á gengistryggðum lánum. "Þetta er hlutverk stofnananna. Við vissum ekki hvað þær ætluðu að gera og sáum tilmælin í fjölmiðlum eins og aðrir," segir Franek Rozwadowski." (Fréttablaðið 3. júlí 2010). "Við höfum auðvitað skýrt stjórnvöldum frá okkar ákvörðun, við höfum rætt þetta ítarlega við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og gerum ráð fyrir að hann muni styðja þessa ákvörðun." (Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri í hádegisfréttum útvarpsins 1. júlí 2010 ...
Hafsteinn
2. Júlí 2010
...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...
2. Júlí 2010
Af hverju tjáir Ögmundur sig ekkert um nýfallin hæstaréttardóm og "tilmæli" seðlabanka ( Ríkisstjórnar)? Af hverju ver engin lánþega í Ríkisstjórn Íslands?...
Björg F. Elíasdóttir
2. Júlí 2010

...Sagt var: Þeir sem telja á sér brotið leiti til dómstóla. Nú liggur niðurstaða dómstóla fyrir. Hana ber að virða. Ef lánveitandinn telur á sér brotið getur hann farið sömu leið og lántakandinn. Spurningin er nú sú, hvort fjármálafyrirtækin telji að Seðlabankinn og FME hafi tekið af sér ómakið. Þau séu einfaldlega laus allra mála. Með tilmælum þessara aðila sé fundin leið sem þau geti farið. Svo er ekki. Í yfirlýsingu FME og Seðlabanka eru tekin af öll tvímæli um að tilmælin séu til bráðabirgða... Ef lánveitendur efast um skyldur sínar og réttmæti niðurstöðu Hæstaréttar eða telja þar eitthvað óútkljáð, verða þeir að fá niðurstöðu fyrir dómi. Hagsmunsamtök heimilanna hafa hvatt til þess að lagalegri óvissu verði eytt með þessum hætti. Hlutverk ríkisvaldsins er í mínum huga nú tvíþætt...
1. Júlí 2010
...Það er raunar einkennilegt að gæslumennirnir skuli ekki hafa séð ástæðu til þess, þegar horft er til efnahagsstöðugleikans, að gera athugasemdir við það þegar 16 milljarðar voru settir í Sjóvá, þegar 26 milljarðar voru settir í Verðbréfastofuna, og þegar 15 milljarðar runnu til Saga Capital, allt á takk bærilegri vöxtum en gæslumenn efnahagsstöðugleikans telja sanngjarnt að heimilin greiði nú af hinum ólöglegu lánum. Þeir Gunnar og Már taka með tilmælum sínum starfstengda áhættu sem væri talin talsverð ef þeir hefðu ekki tryggingu fyrir því að vera í skjóli framkvæmdavaldsins fram yfir haustmánuði. Þeir keppast enda við að undirstrika að þeir hafi tekið "sjálfstæða ákvörðun". Þeir tönnluðust á þessu í gær og þetta sagði Gunnar Andersen í ágætum útvarpsþætti á Bylgjunni í morgun, "þetta er...
Ólína
30. Júní 2010
Ekki virðist hafa verið dugur í fólki að taka afstöðu til aðildarumsóknar að ESB á nýliðnu samstarfsþingi VG. Þykir mörgum það örugglega firnavont, sérstaklega þar sem flestum þeim er fylgja VG að málum finnst það hörmulegt að slíkur gjörningur skuli finnast í stjórnarsáttmálanum. Það virtist aukinheldur sem þingmenn og ráðherrar VG teldu þetta bölvað óráð. Meira að segja Árni Þór sem er í klappliðinu virtist hálfhrekjast horn úr horni þegar hann rembdist haldandi í staurinn við að útskýra í hvaða farvegi málið væri og endaði með því að hálf opinbera andstöðu sína. Nei, fjandakornið segi ég nú barasta, nú er komið að....
Óskar K Guðmundsson, fisksali
30. Júní 2010
...Ég hef verið óánægður með Ögmund, ekki vegna sjónarmiða hans heldur vegna þess hvernig hann opinberar æði oft sín sjónarmið í fjölmiðla þegar þau eru öðruvísi en sú leið sem ríkisstjórnin kýs að fara. En einnig vegna þess að Ögmundur eins og hann segir orðrétt: „Alla mína tíð í pólitík og verkalýðshreyfingu hef ég átt auðvelt með að miðla málum og komast að samkomulagi". Öll þessi erfiðu mál lágu fyrir áður enn til kosninganna kom, svo ég nefni: Icesave, kaup Magma Energy á HS orku, stefnan um fyrningu kvótans, stefnan um eignarhald á vatni, stefnan um markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins, Skattamálin , utanríkismálin, ESB og AGS...
Kristbjörn Árnason
28. Júní 2010
Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...
26. Júní 2010
...Ertu sáttur við framvindu kvótamálsins hjá ríkisstjórn þinni og Jóni Bjarnasyni? Finnst þér ekkert athugavert við síðasta útspil ráðherrans vegna þess? Er þetta bara tómt mál um að tala?
Edda
26. Júní 2010
Hvernig er hægt að halda þetta út? Eftir að hafa setið aðgerðalaus hjá meðan Magma eignast HS-Orku er bókað á flokksráðsfundi að svona nokkuð sé á móti grundvallarstefnu flokksins og lífsskoðun okkar. Þetta er verra en íhaldið sem grillaði á kvöldin og græddi á daginn. Við erum prinsippfólk í flokksstarfi en ...
Áslaug
26. Júní 2010

...Á vissan hátt má líta á stöðu okkar sem þjóðar í stríði. AGS er hér á landi vegna utanaðkomandi þvingana. Það vita allir og eiga að viðurkenna. Við viljum öll losna við AGS sem fyrst. Það hefur marg oft verið sagt. En þar til það gerist verður að hafa virkt og vakandi eftirlit með samskiptum við AGS. Það gerist aðeins með opinni umræðu, meðvitaðri og gagnsærri . Það má aldrei henda aftur einsog gerðist nú í vor að skrifað var upp á framlengingu og nýjar skuldbindingar við AGS án þess að þingið fengi að sjá þær, án þess að ríkisstjórnin fengi að sjá þær! Og hún lét sér það lynda. Svona varð hrunið. Leynd og þöggun átti þar sinn stóra þátt. Við þurfum að horfast í augu við þetta...
23. Júní 2010
Um allan heim er hægt að taka lágvaxtalán. Árið 2006 og 2007 tóku margir Íslendingar lágvaxtalán. Það voru skynsamar ákvarðanir. Löng jenalán hafa ávallt verið góð lán. Fagmennirnir sem veittu þessi lán klikkuðu á því hvernig þeir skyldu tryggja sig. Þeir tryggðu sig með ólöglegum hætti. Þeim hefur verið refsað af hæstarétti. Skynsemdarfólkið heldur sínum lágvaxtalánum. Vonandi veitist ...
Hreinn K
23. Júní 2010
Fjármálastofnanir hafa einhliða ákveðið að senda ekki út greiðsluseðla vegna dóms Hæstaréttar í næstu viku. Þetta er þeim óheimilt. Samningar gera ráð fyrir jöfnum mánaðarlegum afborgunum lánanna og öðrum aðila samnings alls ekki heimilt að breyta samningum, nema þá að í því felist að fjármögnunarfyrirtækið afsali sér þessari tilteknu greiðslu. Það sem fjármálastofnanirnar eru að gera er að þær eru að reyna að svæfa stjórnvöld og almenning fram í næsta mánuð. Kaupa sér tíma heitir það hjá PR-fyrirtækjunum. Ef það er eitthvað sem ríkisstjórnin ætti að gera þá væri það að beina þeim tilmælum til fjármálastofnananna að endurreikna lánin í samræmi við niðurstöðu Hæstaréttar þegar í stað með hjálp ...
Hafsteinn
23. Júní 2010
Ekki fyrir löngu sagði ESB að ábyrgðir gagnvart Englandi og Hollandi væru ábyrgðir gagnavart öllu ESB. Þettar hlýtur þá að vera gagnkvæmt: Þ.e.a.s. að segja að svik, lögbrot, skuldir og ábyrgð hvers einstakts lands innan ESB eru á ábyrgð alls Evrópusambandsins. Því hljótum við Íslendingar að geta krafist af ESB að það gangi í ábyrgð fyrir hvert og eitt ESB-land. Nú er það svo að breska fyrirtækið BP hefur mengað hafið í Mexikóflóa, afleiðingarnar geta spannað áratugi. Eru ekki líkur á því að hafstraumar Golfstraumsins geti flutt þennan skít á íslensk fiskimið og eyðilagt allan okkar afla? Fróðlegt væri að fá oceangrafer eða hafstraumsfræðinga að rannsaka þetta. Ef það eru líkur á þessu, þá...
Karl Jóhannsson
22. Júní 2010
...Yfirlýsingar ráðherra uppá síðkastið staðfesta að hér á landi er verið að búa til alveg splunkunýja samfélagstegund, tvískiptingu valdsins. Annars vegar er löggjafarvaldið, framkvæmdavaldið, fjármálafyrirtækin, fjölmiðlarnir og háskólarnir, en hins vegar almenningur, forsetinn og Hæstiréttur. Athyglisverð skipting sem til dæmis varpa sérstöku ljósi á afstöðu framkvæmdavaldsins ("norrænu velferðarstjórnarinnar"), háskólasamfélagsins og fjölmiðlanna til forseta Íslands. Athyglisverð skipting, sem skýrir til dæmis hugmyndir manna um "þjóðstjórn". Hvað er enda þjóðstjórn? Staðfesting á að öllu valdi, nema valdi fólksins, forsetavaldi og valdi Hæstaréttar, sé undið upp í hnykil til að enginn geti séð hvar spottin byrjar og endar. Ætli menn hafi atkvæðis- og skoðanarétt undir Þjóðstjórn?En hvað gerum við þá, sauðsvartur almúginn? Við getum ...
Ólína
22. Júní 2010
Nú er það ljóst að við hörðustu andstæðingar að aðildarviðræðum við ESB samkomuna höfum fengið öflugan bandamann. Sá er alnafni afrísks knattspyrnuliðs er nú tekur þátt á HM 2010. Ljóst er enfremur að með aðkomu hans höfum vér tryggt okkur að hægjast muni verulega á ferlinu. Nú er bara Ögmundur að einhenda sér í að Icesave fari fyrir dómstólanna, sem gerir það að verkum að aðildarumsóknin frýs þar sem ekki þykir sýnt að turbo hraði muni ríkja við ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
22. Júní 2010
Hann var ný fermdur drengurinn og hafði fengið talsvert af peningum í fermingagjöf og vildi nota þessa aura sína af skynsemi. Fjölskyldan sat við kvöldverða borðið. Sá ný fermdi var hugsi, og spurði foreldra sína hvað þau hefðu í laun á ári. Faðirinn sagði að þau væru með ca. 900.000. (DK). Eru það góð laun spurði sá stutti. Faðirinn svaraði um hæl og sagði að þau ættu fallegt glæsilegt hús,sumarhús 2 nýja bíla og við höfum það gott, förum í góð frí hvert ár. Sá stutti sagði þetta hljóta að vera góð laun: Við höfum það svo gott og erum svo hamingjusöm. Þá spurði sá stutti...
Erling Bjarnason
20. Júní 2010
...Það er óþarfi að bjóða Sjálfstæðisflokknum inn í Stjórnarráðið, glóðvolgum úr hruninu. Pottarnir og pönnurnar eru enn á sínum stað. Núverandi ríkisstjórn á að einbeita sér að því að starfa í anda almannahagsmuna. Aðkoma allra stjórnmálaflokka að ranglátum ákvörðunum verður aldrei kölluð þjóðstjórn. Slík stjórn yrði kölluð samtryggingarstjórnin!
Jóel A.
20. Júní 2010
Það má aldrei gleymast að þeim sem er falið umboð til að ráðstafa opinberum fjármunum verða að fara vel með það vald og svara til ábyrgðar. Í samhengi þess þótti mér vænt um að sjá fyrirspurn frá Eygló Harðardóttur um hvernig ríkið gætti hagsmuna sinna eftir að hafa sett 12 milljarða til að bjarga Sjóvá frá gjaldþroti.... Mér þótti minna vænt um að sjá röksemdafærsluna. Þar segir um það bil orðrétt að vegna stærðar og markaðshlutdeildar Sjóvár hafi ekki þótt æskilegt að hin tryggingafélögin á markanum myndu taka við rekstrinum. Nú er ég á móti einokun og allt það. En þegar einkafyrirtæki á samkeppnismarkaði fer á hausinn þá þarf að...
Gústaf
20. Júní 2010
...Þörf ábending hjá Ólínu. En kannski er Jóhanna komin með Núp við Dýrafjörð á heilann. Þar voru nokkrir "ólátabelgir" við nám á sínum tíma og virðast spjara sig mun betur í pólitíkinni en Jóhanna, enda er hún orðin hálf-gerð grín-fígúra af einhverju sem hún reyndar kannski aldrei var ... nema að hennar eigin sögn ... með gjallarhornum fyrir kosningar, að auglýsa aumingja-gæsku sína ...
Pétur Örn Björnsson
20. Júní 2010

...Þjóðstjórnarfyrirkomulag - sem er háfleygt orð yfir samstjórn allra flokka - breytir því hins vegar ekki að um hugsjónir og stefnumál eru skiptar skoðanir á milli stjórnmálaflokka og hlýtur afstaða til grundvallarmála að skipta sköpum þegar ríkisstjórnir eru myndaðar. Þess vegna verður að spyrja Össur í framhaldinu: Hvað er það sem samstjórn allra flokka myndi gera sem þessi ríkisstjórn gæti ekki gert?...
18. Júní 2010
Forsætisráðherra urðu á alvarleg mistök, opinberlega, sjálfan 17. júní. Hún kenndi Jón Sigurðsson, forseta, við Dýrafjörð. Mörg orð mætti hafa um þessi mistök flytjanda, ræðuritara og yfirlesara, en þeim verður hér stillt nokkuð í hóf. Mistök af þessu tagi gera menn ekki. Ekki á 17. júní, ekki þegar í hlut á Jón Sigurðsson. Skeytingaleysi, þekkingaleysið, af þessu tagi er óafsakanlegt. Sama hve hátt menn hanga á strái, sama á hvaða strái menn hanga, viðkomandi þurfa að ...
Ólína
17. Júní 2010

Ég óska lesendum síðunnar gleðilegs þjóðhátíðardags. Daginn notaði ég til jarðræktarstarfa austur í Grímsnesi en að því loknu var brunað til Reykjavíkur og þáðar kaffiveitingar hjá Helgu Stephensen frænku minni á Laufásveginum í hjarta borgarinnar. Þar hef ég þegið þjóðhátíðarveitingar svo lengi sem ég man eftir mér. Það er eins með hefðirnar og stjórnmálin. Þær eru góðar og slæmar. Góðar hefðir eru eftirsóknarverðar. Þjóðhátíðardagurinn er dagur góðra íslenskra hefða. Það besta í íslenskri þjóðarhefð snýr að opnu og lýðræðislegu þjóðfélagi. Á Laufásveginum í dag varð mörgum tíðrætt um aukinn lögregluvörð á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn og lokun Dómkirkjunnar fyrir almenningi. Allt af öryggisástæðum....
16. Júní 2010
Og þá tók loksins steininn úr. Hvað haldiði, voru ekki evrópusinnaðir framsóknarmenn að berja á þingflokksformanni sínum fyrir þá stórbrotnu leikfléttu hans að hafa aðkomu að tillöguflutningi til afturköllunar umsóknaraðildar að EB. Borið er því við að vilji þessarra evrópusinnuðu framsóknarmanna standi til þess að sjá hvað sé í boði, bara rétt að kíkja á hvað gaurarnir séu tilbúnir að bjóða íslenzka stórveldinu. Nei. hvílík hrakför, svona afleiki leika menn ekki nema þeir vilji samfélaginu hreinlega eitthvað slæmt. Ljóst er að innviðir Evrópusambandsins eru teknir að bresta. Svekkelsi Þýzkra með letidurgshátt ...
Óskar K Guðmundsson,
fisksali.
16. Júní 2010
Tyrkjaránið 1627 var eins og flestir vita ekki eins og nafnið gefur til kynna,beinlínis Tyrkjarán, áhafnir skipanna komu frá Alsír og Marokkó, en stjórnendur/bandítarnir komu að sjálfsögðu frá Bretlandi og Hollandi eins og ræningjarnir í dag en nú heitir það Icesafe-ránið 2010. Þessir gömlu og verstu nýlendukúgarar heimsbyggðarinnar hafa engu gleymt, það er einungis komin ný áhöfn t.d.svokallaðir vinir okkar frá Norðurlöndunum (að undanskyldum Norðmönnum og Færeyingum) EB, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ekki ...
Íslendingur búsettur í Danmörku
15. Júní 2010

Undanfarna daga hefur tölvupóstum rignt yfir alþingismenn með áskorunum um að nema vatnalögin frá 2006 endanlega úr gildi. Það eykur mér bjartsýni að sjá og heyra hve margir eru staðráðnir að láta ekki stela af okkur vatninu. Erlendar þjóðir sem einkavætt hafa vatnið hafa orðið fyrir miklu tjóni. Þetta hefur verið rannsakað og niðurstöðurnar óyggjandi. Í þessu sambandi vil ég sérstaklega nefna erindi sem David Hall, fræðimaður við Greenwich háskólann í Lundúnum, flutti á vegum BSRB fyrir fáeinum árum. David Hall og rannsóknarlið hans hefur sérhæft sig í afleiðingum...
15. Júní 2010
Enn eru margir í losti yfir því að bröskurunum í Magma Energy væri leyft að koma eignarhaldi sínu á HS orku og þar með öðlast ráðstöfunarrétt á orkulindum Reykjaness. Ekki er enn séð fyrir endann á því máli. Getur verið að ríkisstjórnin ætli að gefast upp í þessu máli???? Ég hugsaði við eldhúsdagsumræðurnar á Alþingi í gær: Mikið væri gaman ef einhver hefði flutt ræðu sem verið hefði ein setning svohljóðandi...
Jóel A
15. Júní 2010
...Við sem viljum sem mest einstaklings athafnafrelsi skiljum að þó þjóðin eigi sameiginlega grundvallarþætti athafnalífsins, þá kemur það enganvegin í veg fyrir að einstaklingar stofni sín fyrirtæki og reki þau sér til ágóða, og nýti grundvallar eigur þjóðarinnar til þess. Það eru einmitt þessi smáu einkafyrirtæki sem skapa flest störfin og eru driffjaðrir framfara þjóðfélaga. En við skiljum og viljum jafnframt að ÖLL auðævi landsins og allur þjóðarnauðsynlegur rekstur, sem ekki getur notið eðlilegrar samkeppni, verði að vera í sameiginlegri eign allrar þjóðarinnar! Við einkaaðilar erum ...
Helgi
15. Júní 2010

... Þá er spurningin, ætla menn að nema lögin alveg úr gildi eða slá gildistökuákvæðinu enn á frest. Annað hvort verður að gerast og mun gerast...Þessi herferð var undir herhvötinni: VATN FYRIR ALLA. Þetta verk annaðist Páll H. Hannesson sem starfsmaður BSRB en þau samtök stóðu í fararbroddi í þessari baráttu. Ég er sannfærður um að ef ekki hefði komið til barátta BSRB á þessum tíma hefðu lögin frá 2006 farið í gegn fyrirvaralaust. Að flestum, ef ekki öllum ólöstuðum, gekk Páll H. Hannesson...
15. Júní 2010
Ég minni á að fjórtán félagasamtök skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu um hvernig líta beri á vatn og hvað eigi að finna í lögum um vatn. Krafan er að sérákvæði um vatn verði sett í stjórnarskrána. Ef vatnalögin verða ekki afnumin á Alþingi í dag þá er "vinstri" stjórnin endanlega búin að glata trúverðugleika sínum. Líta ber þá að slíkt "aðgerðaleysi" sem stríðsyfirlýsingu gegn fólkinu í landinu...
14. Júní 2010
Mér finnst þetta tal um hverjir séu góðir og hverjir vondir eigendur að orkulindum út í hött. Þegar búið er að setja auðlindirnar út á markað þá skiptir ekki máli hver kaupir, þetta endar í hörðum bisniss. Mundir þú vilja selja einhverjum mjög góðum og þjóðhollum Íslendingi?...
V.
14. Júní 2010
Skilanefnd Landsbankans neitar staðfastlega að veita almenningi upplýsingar um greiðslur bankans til innistæðu-trygginga-sjóðanna í Bretlandi og Hollandi. Það er vitað að Landsbankinn var með fullar tryggingar hjá Financial Services Compensation Scheme (FSCS) í Bretlandi og hjá De Nederlandsche Bank (DNB). Samt kemur Páll Benediktsson upplýsingafulltrúi af fjöllum og segist engar upplýsingar hafa. Landsbankinn hefur verið með undarlegt bókhald, ef skilanefndin getur ekki dregið fram upplýsingar um þær greiðslur eða skuldbindingar sem bankinn hefur innt af hendi vegna innistæðu-trygginganna. Getur raunverulega verið, að...
Þór Gunnlaugsson
14. Júní 2010

...Hann er svo ágætur hann Ross. Það finnst alla vega Kínverjum. Í Kína er hann á kafi í samningum um orku, sjá t.d. hér ...Leiðir Ross og Kínverjanna liggja víðar saman en þar austurfrá. Báðir aðilar hafa nú lýst áhuga á uppsveitum Árnessýslu. Ross hefur gert samkomulag við Hrunamannahrepp um rannsóknir á jarðvarma „frá Flúðum upp í Kerlingafjöll". Litlu sunnar og austar streymir Þjórsáin. Kínverjarnir sem komu hingað í síðustu viku í nokkrum flugvélaförmum nefndu með nafni virkjanirnar í neðri Þjórsá sem þeir vilja fjármagna. Þessar virkjanir eiga vissulega tilveru í óskhyggju margra, en ekkert ákveðið. Það skipti hina kínversku gesti engu máli. Erlent auðvald veit að aðvelt er að eiga við íslensk stjórnvöld. Óhugnanlega auðvelt. Allt falt...
13. Júní 2010
Ríkisstjórninni hefur verið legið á hálsi að stöðva allar framkvæmdir og framfaramál. Ég get ímyndað mér að hún sé örðin nervös vegna þessa og vill alls ekki veita viðnám í nokkrum málum sem gætu skapað vinnu í verktakageiranum. En er það ekki ankannalegt að á sama tíma og það á að skera niður um 30 milljarða á ári í ríkisrekstrinum næstu árin er ákveðið að halda áfram með gamla tillögu sem þeir Davíð og Halldór höfðu í sem mestum metum. Þetta er bóluáraprósjekt þar sem áætlanir voru gerðar af sama stóruhug og t.a.m stóra tónlistarhúsið. Maður spyr sig hvernig...
Ella Kristín
13. Júní 2010
Ég er sammála Ögmundi varðandi umræður um frystingu launa, að þá sé launa/kjarajönun lausnarorðið.
Stefán Böðvarsson
11. Júní 2010
Í ágætu bréfi frá Árna V. hér á síðunni, með yfirskriftinni "Allt að forskrift AGS?" er greinargóð og skýr lýsing á "ástandinu" á ríkisstjórnarheimili þeirra Steingríms J. og Jóhönnu. Allir á heimilinu virðast vera á fullu í "ástandinu" en húsbændurnir á heimilinu banna öllum að ræða það. Bara má ekki ræða það, bara alls ekki. Heimilsfólkið má kannski, svona innra með sér, blístra voða lágt: "Það er draumur að vera með alþjóða gjaldeyrissjóði ... og finna hve fallega þeir gera ... dásamlega dúdderí og sjúdderí dú ... Flanagan og Franek og sá frægi ... vínarvalsa-kaninn í nikkunnar æðsta dómi ... í einum sussu sussu rómi." Á ekki sauðsvartur almúginn bara að þakka fyrir að það er enn til svona "fínt fólk" á Íslandi, sem virðist vera í náðinni hjá stríðs-kapítalistum heimsins; fær að vera í ....
Pétur Örn Björnsson
10. Júní 2010
Þegar félagsmálaráðherrann ljáir máls á því hvernig megi bregðast við hallarekstri ríkisins án uppsagna er hann snupraður af fjármálaráðherranum. Maður spyr sig hvort það séu engir sameiginlegir hagsmunir og markmið í þessari ríkisstjórn. Er ekkert sem bindur menn saman svo þeir geti metið tillögur um aðgerðir í efnislegri umræðu? .... Jóhanna og Steingrímur eru reyndar með plan. Það er nokkurs konar "laissez faire" hagstjórn þar sem ríkisstjórnin gerir ekkert meðan hin margrómaða endurreisnaráætlun AGS er að virka. Framvindan samkvæmt þessari áætlun er nokkurn veginn þannig að...
Árni V.
9. Júní 2010
Ekki finnst mér skrýtið að hinar merku fræðigreinar háskólasamfélagsins útheimti há laun að þeim fulllærðum. Nú síðast sá ég hvar tveir merkir fræðimenn, eflaust hagfræðingar gátu túlkað menntun sína ansi rúmt í báðar áttir. Annar sem er erlendur að uppruna fullyrðir að samfélag vort sé með svo veikburða hagkerfi að ekki sé möguleiki að greiða þrælsánauðina en hinn sem dvelur við rannsóknir og spár hjá Seðlabankanum ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
9. Júní 2010
Sæll Ögmundur, núna eru lög frá iðnaðarráðherra um afnám vatnalaganna frá 2006 í nefnd. Munu hin umdeildu vatnalög frá 2006 öðlast gildi eða tekst ykkur að lögfesta nýju lögin fyrir 1 júlí?...
Gunnar Skúli Ármannsson
8. Júní 2010
2007-ruglið heldur áfram, nú í boði Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og fyrirtækis sem stofnað var undir handarjaðri fjármálaráðuneytisins. KADEKO hringir það einhverjum bjöllum? Sem sagt einkavæðing heilbrigðisþjónustu í herspítala í Heiðinni í boði heilbrigðis- og fjármálaráðherra. Faglegi hlutinn verður á ábyrgð heilbrigðisráðherra og fjármagn til að byggja upp spítalann kemur af ráðstöfunarfé íslenska ríkisins, en íslenski fjármálaráðherrann er formaður VG. Kastljós sjónvarpsins kynnti hugmyndina í kvöld, eða greiddi áferðarfallegum kadeco-talsmanni leið inn í stofur landsmanna. Hann talaði um viðskiptamódel, hann talaði um gríðarlegar tekjur sem einkarekstur sjúkrahússins myndi ...
Hafsteinn
8. Júní 2010

...En eitt er ágreiningur um stefnumarkmið, annað ágreiningur um tæknileg úrlausnarefni. Lenskan hefur verið sú að stjórn og stjórnarandstaða á Alþingi geri engan greinarmun á þessu tvennu. Stjórnarþingmenn hafa verið meðmæltir öllu sem komið hefur frá framkvæmdavaldinu, stjórnarandstaðan á móti. Þetta þarf að breytast - og - er að breytast. Smám saman. Það má tvímælalaust merkja í nefndarstarfi á Alþingi. Það hefði verið til góðs að þessi breyting hefði átt sér stað fyrr. Ef taka hefði mátt eina hugsun úr heilaforriti hvers þingmanns, nefnilega vitneskjuna um hvaða stjórnmálaflokki hann tilheyrði, þá hefði margt...
8. Júní 2010
Óreyndur ráðherra Samfylkingarinnar vill frysta laun opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Þetta leggur hann til um leið og hann með liðlegu hendinni samþykkir stórfelldan skattafslátt til fyrirtækis sem Björgólfur Thor Björgólfsson á í komapaníi við athafnamann úr röðum Samfylkingarinnar. Þetta leggur hann til samtímis því að ljóst verður að trúnaðarmenn Samfylkingar hafa leitað leiða til að komast framhjá Kjararáði til að geta greitt annars konar opinberum starfsmanni 400 þúsund krónur meira á mánuði í laun. Hann vill ...
Jóna Guðrún
8. Júní 2010
Ráðning Más í seðlabankann er besta ráðning í heimi ef marka má orð forsætisráðherra. Aldrei fyrr hefur verið staðið jafnvel að ráðningu svo vitað sé til í forsætisráðuneytinu. Orð ráðherrans lýsa þessu best: „Það hefur aldrei nokkurn tíma að því er ég best veit verið staðið eins faglega að ráðningu og í tilfelli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra" Alveg er það magnað að besta ráðning í heimi feli í sér að launþegi telji að á sér hafi verið brotið og ekki staðið við umsamin ráðningarkjör ári eftir ráðninguna. Nú er Már sennilega ...
Árni V.
3. Júní 2010

Í lesendabréfi frá Ólínu hér á síðunni er beint til mín áskorðun sem ég beini hér með til fjölmiðla um að grafast fyrir um hvers vegna heita vatnið frá Orkuveitu Reykjavíkur er hækkað um 37%. Fréttablaðið segir okkur að það sé gert til að tryggja 5 prósenta arðsemi. Þessi skýring nægir ekki Ólínu. Hún nægir mér ekki heldur. Ég geri spurningu Ólínu hér með að minni og heiti lesendum að birta svörin hér á síðunni þegar þau berast. Ég trúi ekki öðru en fjölmiðlar ...
3. Júní 2010
...Fréttin um 37 prósenta hækkunina til að tryggja 5 prósenta arðsemi Orkuveitunnar birtist í Fréttablaðinu. Þetta var góð frétt. Fréttamannsins, eða blaðsins vegna, er vonandi að þörfin fyrir hækkun og krafan um arðsemi byggist ekki á framkvæmdum sem verður að ráðast í af hálfu Orkuveitunnar til að selja orku til stóriðjunnar á Suðurnesjum eða annars staðar. Ef svo væri hefði fyrirsögnin átt að vera: Stóriðjan kallar á verðhækkun á heitu vatni. Ef svo væri hefði þurft að víkja að þessu nokkrum orðum í ágætri frétt. Það þarf líka að skýra hvenær borgarstjórinn vissi af þessu. Vissi hún af þessu þegar hún hún sagði frá því að Sjálfstæðisflokkurinn hefði, eins og gjörvallur fjórflokkurinn, unnið glæstan sigur í kosningunum? Að birta þessar upplýsingar þremur dögum eftir kosningar í Reykjavík og í Reykjanesbæ er óþolandi og fullkomið virðingaleysi við þá sem skipta við...
Ólína
2. Júní 2010
Margt gott hefur þú látið frá þér fara, en þegar að Israel kemur virðist þú alltaf rjúka upp í vanhugsað orðagjálfur og yfirlýsingar frá þér og þeim sem alltaf virðast vera andstæðir gyðingaþjóðinni eru ótrúlega hugsunarlausar. Hvaða þjóð hefði leyft lest af skipum hlöðnum óþekktum vörum og greinilega mönnuðum af andstæðingum viðkomandi þjóðar að ...
Sigþór Guðmundsson
2. Júní 2010
...Veist þú fleiri dæmi þess að þingmenn VG hafi verið á sporslum frá NATO á síðustu árum?...
Hannes
1. Júní 2010
Óneitanlega vekur samstarf styrkþegans Dags, sem leiðir ríkisstjórnarnefnd sem er svo absúrd að tekur fram gnarrismanum, (Allir glaðir 20/20), og grínflokksins Besti flokkurinn nokkra athygli. Og meira en athygli, maður veltir stundum fyrir sér hvor er grínarinn; Dagurinn eða Jón.
Hafsteinn
1. Júní 2010
Níutíuogátta prósent tekna íslensku lífeyrissjóðanna koma úr íslensku efnahagslífi. Því sterkara sem íslenskt atvinnulíf er, því sterkari eru sjóðirnir. Þess vegna er ekki skynsamlegt að fara með fjármuni úr landi, heldur borgar sig fyrir sjóðina að byggja upp Ísland. Sjóðirnir tapa á atvinnuleysi á Íslandi. Sjóðirnir tapa ef efnahagslíf Íslands er veikt. Það gagnar ekki að fjárfesta í uppbyggingu í öðrum löndum. Það er ekki áhættudreifing. Það er bara óskynsamlegt. Það á ekki að vera erfitt að sjá þetta samhengi. Lífeyrissjóðirnir eru ekki vogunarsjóðir. Þeir eru ekki geymsla. Það er ekki óhugsandi að nota lífeyrissjóðina sem efnahagslegt stjórntæki. Flytja peninga úr landi, þegar ofhitnar og tilbaka þegar kreppir að. En þá er líka nauðsynlegt að breyta kerfinu, þannig að ...
1. Júní 2010
Það þarf að beita Ályktun 377 strax í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna framhjá Bandaríkjunum og beita því á Ísrael...
Jón Þ
1. Júní 2010
Það er ljóst að nýjustu fréttir af framlagi Ísraelsmanna til friðarviðleitni munu ekki bera árangur. Það er sorglegt að sjá heila þjóð aftrompaða með slíkum hætti af vægast sagt misvitrum ráðamönnum hennar. Þarna niður frá væri svo sannarlega gott tækifæri fyrir capasent eða hvað þeir heita til að mæla fylgi íbúa Ísraelsríkis við þessa aðför. Frávikstölur yrðu engar þar sem fylgi yrði fortakslaust gegn slíkri skammarframkomu við það fólk sem í hlut á. Hins vegar hefur belgingurinn og blásturinn sem ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
31. Maí 2010
...Ég hef fylgst með stjórnmálaleiðtogum túlka afstöðu kjósenda í Reykjavík síðan í gær. Vinsælast er að túlka afstöðu kjósenda Besta flokksins enda eru þeir taldir hafa tjáð afar skýran vilja. Síðan kemur hver leiðtoginn af öðrum með sína útgáfu af sögu sem greinilega er ætlað að blása lífi í þeirra eigin pólitísku líftóru. Allir keppast við að lýsa hversu sterk þeirra eigin staða sé vegna úrslitanna. Dagur stendur upp úr. Hann sér að kjósendur vilja breytingar og þar sem Samfylkingin tapaði aðeins þremur prósentustigum (held ég að hann hafi sagt í ræðu) er ljóst að Samfylkingin í Reykjavík hefur hlotið umboð til að leiða þær breytingar. Ég skildi þetta reyndar ekki með hversu litlu Samfylkingin tapaðið því hún fer úr 27% fylgi í síðustu kosningum niður í 18% - þeir missa þriðjung!! Dagur lagði samt útfrá því að Samfylkingin gæti ...
Ella Kristín
30. Maí 2010

...Er það kannski einmitt þetta, skorturinn á auðmýkt og afneitun á að horfast í augu við veruleikann, sem kjósendur Besta flokksins eru að gera uppreisn gegn? Að hluta til held ég að svo sé. Að fólki finnist að veruleikinn sé eitt, orð stjórnmálamanna eitthvað allt annað. Uppreisnin er þannig ekki bara gegn „hrunflokkunum", leiðsögumönnum þjóðarinnar út í efnahagsógöngurnar, heldur líka veruleikafirringu stjórnmálanna almennt; gegn tungutaki ósanninda, auglýsingaskrums um að stjórnmálamenn horfi ævinlega til almannahags, viðhafi opin og lýðræðisleg vinnubrögð þegar allir vita að allt annað er uppi á teningnum. Fólk sér að þrátt fyrir hrun og hunskýrslur er áfram meira að segja...
29. Maí 2010
Örlitlar vangaveltur á kjördag. Merkilegt nokk en þá verður að teljast sem nokkrir aðilar að framboðum til sveitastjórnakosninga hafi gert allmikil mistök við uppröðun lista sinna. Tökum t.d. framsetningu lista samstarfsflokks VG í Reykjavík. Þar hefði nú ekki verið dónalegt að láta Hjálmar sem hefur gott pólitískt læsi og prestinn sem tæplega ber minna skynbragð á velferðarmálin en Oddný, leiða þennan lista. Ég segi hiklaust að sá frontur hefði leitt af sér betri útkomu. Hanna Birna geldur fyrir það að Gísli Marteinn sá ekki ástæðu til að leita á aðrar slóðir enda búinn að sérmennta sig í borgarmálum Reykvíkinga í Aberdeen. Í Kópavogi, mínum bæ, munu sjálfstæðismenn gjalda fyrir það að ...
Kv. Óskar K Guðmundsson, fisksali.
29. Maí 2010
...Það var gott að þú varðir Lilju Mósesdóttur og ættu hinir í VG að skammast sín fyrir að ráðast á hana, eins og þeir hafi nokkur efni á að dæma hana. Þú skrifaðir um kosningarnar: " Samkvæmt skoðanakönnunum er Þorleifur Gunnlaugsson, annar maður á framboðslista VG úti, nær ekki kjöri. Það væri mikið slys. Þorleifur hefur verið einn öflugasti baráttumaður fyrir efnalítið fólk í borginni, vakinn og sofinn yfir hagsmunum þess". Það er kannski verið að þurrka flokkinn út vegna stuðnings ykkar við ...
Elle
29. Maí 2010
Í einni af mörgum auglýsingum Vinstri Grænna segir "Samþykkjum aldrei fátækt" hvers vegna stöðvið þið þá ekki Árna Pál Árnason í því að skerða lífeyrisgreiðslur til öryrkja?
Jón Þ
28. Maí 2010

Staðreyndin er sú að borgarfulltrúar VG í Reykjavík hafa staðið sig vel allar götur frá því flokkurinn bauð fyrst fram í borginni. Það verður því ekki sagt að sanngirni réði ef fram fer sem nú horfir samkvæmt skoðanakönnunum, að flokkurinn fengi aðeins einn fulltrúa kjörinn. VG hefði átt skilið að fá fjóra eða fimm fulltrúa - að minnsta kosti!
Samkvæmt skoðanakönnunum er Þorleifur Gunnlaugsson, annar maður á framboðslista VG úti, nær ekki kjöri. Það væri mikið slys. Þorleifur hefur verið einn öflugasti baráttumaður fyrir efnalítið fólk í borginni, vakinn og sofinn yfir hagsmunum þess, auk þess sem hann hefur ...
28. Maí 2010

Á kosningaskrifstofum VG í Kraganum hefur verið meira líf en í flestum kosningum fram til þessa... það skiptir máli hvort til áhrifa eru kosnir stjórnmálamenn sem leggja áherslu á atvinnu fyrir alla, jöfnuð og velferð eða þeir sem fyrst og fremst þjóna fjármagninu og handhöfum þess. Frasar? Nei, raunveruleiki sem nýlega var fjallað um í rannsóknarskýrslu Alþingis. það má læra af henni. Það má hafa hana í huga við kjörborðið á morgun.
28. Maí 2010
...Væri ekki hægt að fá hjálp rannsóknarblaðamanna og kvenna erlendra og innlendra til að svara þessum spurningum sem þú spyrð í lok greinar?: Hverjir eru Magma Energy? Hverjir eiga Suðurorku? Hver á vatnsveituna í Vestmannaeyjum, hver ráðstafar heita vatninu á Reykjanesi næstu 130 árin? Hverjir eru bakhjarlarnir, hver er kennitalan?
Oddný Eir Ævarsdóttir
28. Maí 2010
...Takk fyrir færsluna um Lilju Mósesdóttur. Hún á allt gott skilið. Hún er flokksbetrungur VG
Gunnar Skúli Ármannsson
28. Maí 2010

...Mikilvægt er að draga af þessu rétta lærdóma. Einakframkvæmdin var upphaflega hugsuð til þess að fegra bókhaldið (skuldin var færð á fyrirtækið sem byggði viðkomandi mannvirki en ekki sveitarfélagið sem skuldbatt sig til að borga brúsann) og einnig til þess að færa einkaaðilum auðfenginn gróða á kostnað skattborgarans. Miklivægt er að kjósendur hafi það í huga að verið er að kjósa um raunverulega valkosti. Talsmenn flokkanna í Hafnarfirði minntu okkur ágætlega á það í gær. Áherslur Guðrúnar Ágústu um jöfnuð, félagslega ábyrgð og umhverfisvernd voru allar á sínum stað...
28. Maí 2010
...En það sem ég vildi gera að umræðuefni nú er annað og það er ógagnsæið í þessu máli öllu en þar hlýtur þú að spyrja sjálfan þig um ábyrgð ríkisstjórnarinnar þinnar sem fer með hlutabréfið í Kadeco og er ábyrgt fyrir framferði minna manna, Árna Sigfússonar bæjarstjóra sem er í stjórn Kadeco o.fl., en sjálfur er ég sjálfstæðismaður - óánægður sjálfstæðismaður. Ég er ekki par sáttur við mína menn og leyfi mér að spyrja hvað þér finnist um framgöngu þinna manna Ögmundur. Ég vil frjálst markaðskerfi en ekki spilllingarkerfi. Ég sé í ársreikningi að árið 2007 hefur ríkið lagt félaginu til rúman milljarð. Aðrar tekjur þess voru ...
Óánægður Sjálfstæðismaður
28. Maí 2010
...Eina skynsamlega lausnin nú, er sú að gamla fólkinu gefist kostur á því og það verði hvatt til þess að hverfa af vinnumarkaði með reisn til þess að unga fólkið með óskerta starfskrafta og oft með mikla menntun komist að til að vinna og greiða skatta. Gamla fólkið greiðir litla skatta. Það er merkilegt með Íslendinga, að þegar einhver leggur fram róttækar hugmyndir sem allir vita að eru því miður nauðsynlegar þorir enginn að segja sína skoðun. Við verðum að þora að taka málið til umræðu. Ekki er betra að bíða endalaust og láta atvinnuleysið fara úr öllum böndum. Það getur ekki verið nein dyggð í því fólgin að taka ...
Kristbjörn Árnason
27. Maí 2010
...Á meðan hlær samstarfsflokkurinn í faldi dekurdúkkunnar, AGS. Ég ítreka þá yfirlýsingu mína frá áðursögðu, að sá flokkur sem gefur það út skilyrðislaust að umsóknarferlið að EB verði stöðvað og vangadansinn við AGS verði endurmetinn, alla hvað varðar alvarlega íhlutun í innanríkismál, mun hljóta atkvæði mitt, og mig grunar þó nokkurra til viðbótar.
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
27. Maí 2010
Flestir sem ég þekki telja Lilju Mósesdóttur hafa tjáð sig af viti, skýrleik og rökfestu um HS-málin. En þessi orð Lilju fá ekki háa einkunn hjá forsætisráðherranum ef marka má hvað er haft eftir henni á rúv-vefnum....Ég spyr hvort stjórnmálin eigi aðeins að endurspegla eina skoðun og engin umræða eigi að fara fram fyrir opnum tjöldum nema hún sé valdhöfum þóknanleg? Hvað kemur næst?
Tryggvi
27. Maí 2010
Mér sýnist íslensk stjórnvöld vera að gera ein mistök er varða umsókn Íslands að Evrópusambandið (ESB). Þannig er að í Íslandssögu 19. og 20. aldar skiptu einstakir leiðtogar alltaf mun meira máli en innihald þeirra stjórnarmála sem um var að tefla. Íslendingar hafa alltaf tekið afstöðu frekar til stjórnmálaleiðtoga, trúarleiðtoga og uppeldisfrömuða fremur en til málefna, eins og hér kemur fram. Hið sama mun og gilda um EES þar sem ekki var þjóðaratkvæðagreiðsla en persónustjórnmál munu hafa ráðið þar úrslitum. Hver las annars ...
Kjartan Emil Sigurðsson
26. Maí 2010
Eitt af mikilvægum skrefum til hagræðis og niðurskurðar gæti verið að sameina endanlega yfirstjórn ASÍ og SA. Fáráðlegt er að reka tvær yfirstjórnir yfir tveimur samtökum, þegar ástarsamband þeirra yfirstígur alla venjulega rómantík innan lokaðra skápa. Sameiginleg gildi atvinnurekenda og verkamanna voru fyrsti félagsgrundvöllur verkafólks sem fljótlega villtist þó til sjálfstæðrar hagsmunabaráttu. Svo kann að virðast að íslenskir verkalýðsforingjar vilji nú hverfa að fyrstu gerð. Hann hét Benitó, Ítalinn, sem þarlendis lagði á ný grunn að formlegri sameiningu samtaka atvinnurekenda og verkalýðssamtaka undir forsjá ríkisins. Ekki stendur á ríkinu og ekki stendur á atvinnurekendum á Íslandi og víst er að ASÍ er nú þegar ...
26. Maí 2010

Haft var eftir forsætisráðherra í fréttum í gær að þingmenn stjórnarflokkanna ættu ekki að bera ágreiningsefni á torg. ... Ein meginástæða hrunsins var það viðhorf að undir engum kringumstæðum mætti anda á forsvarsmenn í ríkisstjórn. Það myndi skaða og ekki sýna trúverðugleika og styrk út á við. Nú er Lilju Mósesdóttur legið á hálsi að orða þessa hluti nú rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar. Hvers vegna gerir hún það og þá einnig ég? Vegna þess að það er verið að ganga frá samningum við Magma núna - reyndar er búið að því. Lilja Mósesdóttir var spurð hvers vegna hún hefði ekkert gert. Hún upplýsti um hvað hún hefði gert. Varð það rangt af henni? Skaðar það VG sem baráttuhreyfingu? Nei, ef eitthvað er, þá styrkir það VG að ræða hlutina opinskátt einsog þeir eru...
24. Maí 2010

Mánudaginn 15. febrúar var haldinn fundur í sveitarsjórn Skaftárhrepps. Þrettán liðir voru á dagskrá. Tíundi dagskrárliðurinn lét ekki mikið yfir sér, beiðni frá Suðurorku ehf. um rannsóknarleyfi vegna hugsanlegra virkjana. Eftirfarandi er bókað: „
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að Suðurorku ehf. verði veitt rannsóknarleyfi á vatnasviðum Skaftár og Tungufljóts í Skaftártungu samkvæmt fyrirliggjandi umsókn félagsins til Orkustofnunar". Suðurorka ehf, er skráð að Túngötu 6 í Reykjavík, þar sem Baugsfyrirtækin voru til húsa og fleiri, en smelli maður á nafnið kemur í ljós að heimilsfang Suðurorku er Brekkustígur 36 í Njarðvík. Sama heimilisfang og HS Orka hefur. Ágætur vinur minn sagði að ástæðulaust væri að reyna að gera þetta tortryggilegt. Það væri ekki ...
24. Maí 2010
Dæmisaga Hreins K um bóndann er ágæt. Mín útfærsla á efnahagsstefnu stjórnvalda og hræðslu þeirra við lífeyrissjóðina er þessi: Það sprakk dekk á fjölskyldubílnum. Ákveðið var að hringja á leigubíl frá AGS til að þurfa ekki að "eyða" varadekkinu.
marat
23. Maí 2010
...Hann var dugnaðarforkur og safnaði heyjum á hverju ári umfram það sem hann þurfti. Byggði úr þeim sátur miklar og tyrfði yfir og kallaði fyrningar. Hugsaði gott til glóðarinnar að nota fyrningar í heybresti. Eitt árið kom pest í féð og varð úr fellir. Fækkaði fénu um helming. Húsfreyja kom að máli við bónda og kvað nauðsynlegt að selja fyrningar og efla bústofninn. Að öðrum kosti gæti hún ekki fætt börnin og klætt. Bóndinn vildi ekki heyra á það minnst. Fyrningar skyldi nota þegar tún kæli eða hey yrðu lítil. Þetta væri trygging til framtíðar. Réði bóndi þessu og safnaði hann fyrningum sem aldrei fyrr, þar sem bústofninn hafði minnkað. En börnin sultu og fátæktin barði að dyrum.
Í nútíma útfærslu skiptum við út orðinu fyrningar fyrir ...
Hreinn K
23. Maí 2010
Ég vil taka undir bréf Guðjóns Jenssonar: ÞÖRF Á OPINBERRI RANNSÓKN, Gunnars Skúla Ármannssonar: ÍSLAND GÆTI ORÐIÐ NÝLENDURÍKI og Þórs Gunnlaugssonar: NÝ STAÐA Í ICESAVE. Þeir hittu naglann á höfuðið. Það er ömurlegt hvað þessi svokalla ´velferðarstjórn´ eða vinstri stjórn hefur illilega brugðist okkur. Nú erum við í miðri landsölu, Ögmundur, og ófyrirgefanlegt að þið skulið ekki hafa brugðist við miklu fyrr. Hvernig getið þið kallað ykkur ´velferðarstjórn´ og stutt helstefnu AGS, sem vinnur hörðum höndum, hvar sem þeir komast inn í lönd, við að einkavæða allar auðlindir og ríkisfyrirtæki landa??? Þið hljótið að vita að þeir vinna fyrir auðmenn og bankamenn og stórveldi. Hví styðjið þið AGS-, EU, ICESAVE- LANDSÖLUSTJÓRNINA??? Þið getið ekkert blekkt okkur með því að ...
Elle
23. Maí 2010
...Ef við leikum okkur aðeins með hugtök og setjum Einokunarverslun Dana á Íslandi 1602-1787 í staðinn fyrir Magma Energy, myndu þá Sjálfstæðismenn vera jafn brattir í þessum málum og þeir virðast hafa sýnt? Braskaranir sem standa á bak við Magma gætu alveg eins verið að bjóða Íslendingum upp á einokun eins og hún var verst fyrir 220-410 árum. Íslendingar eiga eftir hugmyndum þeirra að taka á sig stofnkostnað og bjóða á þessum kumpánum upp á kúlulán í boði Sjálfstæðisflokksins í Keflavík. Ekki eina einastu krónu á að greiða fyrir aðganginn að orkuforða þjóðarinnar sem fólginn er í jarðhita landsins. Yfirtekin eru lán Geysir Green að nafninu til sem í dag virðist ekki vera sérlega fjárhagslega burðugt. En Magma virðist ...
Guðjón Jensson
23. Maí 2010
Öll möguleg mæða vegna m.a.fjármála TR-Hörpu stafar af ákveðinni fötlun, ákveðinni blindu. Fötlunin stafar frá þeim úrelta hugsunarhætti að efni gjaldbær aðili til lántöku og skuldbindinga, beri honum að standa skil á ábyrgðinni. Íslenska efnhagasundrið átti rætur í fólki, sem yfirvann fötlun af þessu tagi. Þessu fólki lærðist að ábyrgð er úrelt hugtak. Því lærðist að stórlántaka getur verið léttur leikur, skapi maður sér rétta aðstöðu til lántöku. Því lærðist líka að ábyrgð og endurgreiðsla er ,,síðari tíma vandi" og skildi, að alltaf er hægt að hlaupast á brott. Þegar maður er ófatlaður og í réttri aðstöðu getur maður keypt sér fótboltalið, flugfélög, verslunarkeðjur,banka, glerhallir, sigrað heiminn um tíma a.m.k. Að leikslokum getur maður staðið við ,,ábyrgð" með því að segja sorry, fella nokkur krókódílstár að gamni sínu. Sem betur fer finnast ...
23. Maí 2010
...Ríkissjóður myndi greiða lífeyrissjóðunum þau iðgjöld sem borist hefðu af þessu fólki þessi næstu tvö ár. Í stað þeirra starfa sem þá losnuðu yrðu fyrirtækin að ráða ungt fólk af atvinnuleysisskrám í stað eldra fólksins. Það er miklu ódýrara að greiða lífeyrissjóðunum þessi iðgjöld heldur en að hafa sama fjölda á atvinnuleysisbótum. Auk þess að þetta fólk færi þá að greiða skatta og skyldur.
Venjulegur árgangur Íslendinga er nálægt 4200 einstaklingar en þeir árgangar sem þarna er um að ræða eru óvenju stórir. Varlega mætti áætla að ...
Kristbjörn Árnason
20. Maí 2010
Þegar AGS hefur lokið sér af, verður búið að breyta einkaskuldum í íslenskum krónum í gjaldeyrislán með ríkisábyrgð. Sennileg niðurstaða er skuldaaukning ríkisins uppá 1000 milljarða í gjaldeyri. Undir því munum við aldrei rísa, en "erlendir fjárfestar" eiga góða daga í vændum. Kaup skuldabréfa af Seðlabanka Lúxemborgar sem okkur er sagt að hafi öll verið með ríkisábyrgð eru gerð að kröfu AGS og framhjá gjaldeyrishöftum. Við stefnum í að verða nýlenda fjármálaafla. Stöðugar ...
Hreinn K
20. Maí 2010
...Það er löngu ljóst að þú átt enga samleið með þessum ákvörðunarfælnu Grænjöxlum sem þú hefur kennt þig við fram að þessu. Við, fólkið í landinu þurfum ekki fólk á þingi sem sérhæfir sig í að taka mál til skoðunar þegar skaðinn er skeður. Það er nefnilega svo að það er of seint í rassinn gripið þegar búið er að gera í buxurnar. Þetta vita flestir. Það sem þú þarft að gera núna er að fara fram á eigin forsendum, fá með þér gott fólk og stofna eigin flokk. Þú gætir kallað hann "Frábæra Flokkinn". Og það ...
Aðalsteinn
20. Maí 2010
..Þú getur sjálfur flutt frumvarp um að íslenska ríkið taki HS orku eignarnámi. Sjá 72. gr. stjórnarskrárinnar. Ekkert stendur þessu í vegi og sæist þá hverjir standa með þjóðinni og hverjir ekki....
Viggó Jörgensson.
19. Maí 2010

...það er ekki einvörðungu arfleifð gamallar vináttu sem heillar mig við þessa gömlu verkalýðskempu heldur einnig baráttukrafturinn, mannvitið, hlýjan og kímnin sem geisla frá honum í ríkari mæli en flestum mönnum öðrum. Það var mér heiður að fá að sækja heim hinn síunga öldung í tilefni stórafmælis hans...
18. Maí 2010

...En þegar menn eru búnir að skuldsetja sveitarfélögin upp í rjáfur einsog gerst hefur í Reykjanesbæ eða eru glámskyggnir á hætturnar í samstarfi við „góðu mennina" sem koma með allt nammið frá útlöndum og segjast vilja okkur svo vel, einsog mér heyrist á oddvita Hrunamannahrepps, þá þarf að grípa í taumana. Ég tek heilshugar undir með höfundi leiðara Morgunblaðsins sem bregst við einmitt þessum aðstæðum í dag og segir réttilega...
18. Maí 2010
Ég vil þakka þér greinina um söluna á HS og er ánægður með viðbrögð lesendabréfanna líka. Sjálfur vil ég bæta við og spyrja hvaða greinarmun við eigum að gera milli þeirra fjárfestingafyrirtækja sem hafa komið að íslenska orkugeiranum síðustu ár við núverandi umgjörð viðskiptalífsins. Þá vísa ég til þess kerfis þar sem menn fjárfesta úr kommóðuskúffum og gegnum leppa. Hugleiðum þessa sögu: Fyrst er Ásgeir Margeirsson hjá OR og gætir hagsmuna skattgreiðenda sem starfsmaður opinbers fyrirtækis. Svo er sami maður kominn til Geysir Green og vill taka yfir verkefni OR í nafni fjárfesta. Hann er sá eini sem ...
Loftur
18. Maí 2010
... Þú verður að stöðva söluna á HS orku til Magma. Stattu þig.
Ingólfur
18. Maí 2010
...Við erum að bregðast og salan á HS Orku er eitt augljósasta dæmið um það. Ég hef á tilfinningunni að allt sem gerist í dag í þjóðmálunum sé velþóknanlegt í huga stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar.(mínus kettina)Það sem gerist má maður ekki vera á móti því það er í boði vinstri stjórnar, stuðningsmennirnir vilja ekki styggja stjórnina og telja sér trú um að það sem gerist sé vinstri stefna eða illskásti kosturinn. Í raun bara stefna AGS. Ástæðan fyrir þögn hægri manna er að um er að ræða hægri stefnu í raun. Fólk verður að fara að hugsa sjálfstætt og gagnrýnið annars verðu Ísland orðið nýlenda fyrr en varir.
Gunnar Skúl Ármannsson
18. Maí 2010
...Fjármálaráðherra metur stólinn meira fyrir sig en sjónarmið flokksins því miður og því ætti að kalla saman miðstjórn nú þegar og slíta þessu samstarfi. Það má vera að skipta þurfi um formann í flokknum úr því að hann getur ekki farið eftir lögðum línum miðstjórnar heldur læðist á vítateig sátta. Enn alvarlegra er sú staðreynd að áfram skuli unnið að greiðslusamningum um Icesafe þótt komin sé upp ný staða með það mál þar sem eigendur bankanna hreinlega stálu fénu og því ekki kerfishrun eins og ...
Þór Gunnlaugsson
17. Maí 2010
Mikið er eg sammála þér varðandi þetta Magma mál. Það er mikil pólitísk skítalykt af þessu máli og á ferðinni einhverjar furðulegar bókhaldsbrellur. Forsögu þessa máls má rekja nokkra áratugi aftur í tímann: Fyrir nær 2 áratugum var fyrirtækið Jarðboranir einkavætt fyrst að hluta og síðar að öllu leyti. Yfir þúsund einstaklinga voru hluthafar og greiddu með beinhörðum peningum. Síðar keyptu ýmsir athafnamenn stóra hluti í fyrirtækinu, sjálfsagt fyrir lánsfé og má þar nefna ...
Guðjón Jensson
17. Maí 2010
...Ég furða mig mikið á því að stjórnvöld ætli að leyfa Magma Energy að kaupa í HS orku þar sem það virðist svo greinilega ganga gegn EES-rétti. Mig langaði að benda á grein eftir Elviru Méndez Pinedo, prófessors í Evrópurétti við Háskóla Íslands, þar sem hún bendir á að fjárfestingar í gegnum skúffufyrirtæki líkt og hjá Magma Energy ganga gegn ESB/EES rétti. Elvira rekur hvers vegna svo sé og bendir á nokkra dóma Evrópudómstólsins sem staðfesta þetta. Greinina má finna hér...
Sara
17. Maí 2010
... Núna er bara að láta hendur standa fram úr ermun og þjóðnýta HS Orku og það án þess að Magma og GGE fái krónu í bætur. Eða er það kannski þannig að þið þorið ekki??
Einar Þór Strand
17. Maí 2010
Ég sagði einu sinni fyrir löngu þegar þú byrjaðir þinn pólitíska feril á alþingi, "þennan mann vil ég sjá í stjórn" , "Af hverju?" spurði félagi minn. Svar mitt var einfald. "sjá hann standa við stóru orðinn í verki" Nú hef ég séð það og orðið fyrir miklum vonbrigðum. Þú fékkst allt sem þú baðst um og hljópst svo frá því. Þín stóru orð eru nú sem loft í mínum heyru eftir aðgerðir þínar síðustu ár í ríkisstjórn og meðlimur í einum stjórnarflokknum. Er ekki tími til kominn að þú dragir þig algerlega út úr stjórnmálum þar sem málfluttningur þinn hefur borið skipsbrot. Mín reynsla af afskiptum stjórnvalda hefur valdið mér ...
Símon Jónsson
16. Maí 2010
...Kannski er gott að þjálfa langömmur upp í „Undirbúning fyrir ævistarfið" á þessum síðustu og verstu tímum. Fólk sem unnið hefur ummönnunarstörf veit hve miklu máli það skiptir fyrir líkamlega og andlega heilsu að fá að halda mannlegri reisn sinni. Ég vildi senda þessa hugleiðingu frá mér með von um að fleiri þurfi ekki að láta svona nokkuð yfir sig ganga. Stundum er fólk þannig statt í lífinu að það getur ekki varið sig, við skulum hafa það í huga. Mér finnst þetta ömurleg kveðja frá samfélaginu mínu eftir langa starfsævi!...
Arndís R. Magnúsdóttir,
langamma
16. Maí 2010
Sögulegt hlutverk VG virðist vera að kæfa andstöðu gegn AGS, baráttu gegn erlendum ítökum á Íslandi, gegn valdatöku fjármálaaflanna, og einkavæðingu banka án umræðu. Koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu, opna stjórnsýslu, heiðarleika í stjórnkerfinu. Hjálpa til við umsókn í ESB, við Icesave-kúgunina, braskvæðingu mengunarkvóta, niðurbroti fátækra fjölskyldna, okurvæðingu í lánakerfinu. Er þetta allt í stefnuskrá ...
Hreinn K
16. Maí 2010

...Samfélagið er bregðast sjálfu sér; ríkisstjórnin er að bregðast komandi kynslóðum í þessu máli. Við sem sitjum á Alþingi erum að bregðast sem löggjafi því við verjum ekki auðlindir þjóðarinnar gegn braski. Fjármálamenn eru líka að bregðast samfélagi sínu. Þeir ættu að sjá sóma sinn í því að hugsa á félagslega ábyrgan hátt; láta auðlindirnar í friði, ella verður ríkisstjórnin og sameinað Alþingi að bregðast við hart. Andvaraleysi í þessu máli er ekki valkostur.
16. Maí 2010
Ólof Nordal, þingkona Sjálfstæðisflokksins, sagðist í morgunþættinum Sprengisandi á Bylgjunni, vilja kosningar sem fyrst. Núverandi ríkisstjórn sé ekki nógu góð því að það "sér í ágreininiginn" sagði hún. Það er nokkuð til í því hjá Ólöfu og það er líka staðreynd að á sínum tíma "sá ekki í ágreininginn" hjá þeim Davíð og Halldóri og lítið hjá þeim Geir og Sólrúnu. Öll plástruð í bak og fyrir. Allt í leyni. Allt sukkið og svínaríið í leyni. Viljum við það? Viljum við ekki frekar ...
Sunna Sara
16. Maí 2010
Krefjumst afsagnar leppstjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins! Burt með AGS! Leppstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hin Norræna velferðarstjórn, hefur endanlega afhjúpað vanhæfi sitt! Hún hefur ekki varið hagsmuni þjóðarinnar, og síst þeirra sem standa höllum fæti, gegn auðmagninu og eigendum þess, hvers fulltrúi AGS er! Nú á enn og aftur að ráðast á velferðarkerfið til að auðvaldið fái sitt! Hagsmunir þess hafa forgang, ekki alþýða Íslands! Næst mun velferðarstjórnin afhenda hina alþjóðalega auðvaldi auðlindir þjóðarinnar, og afnema hið félagslega rekna heilbrigðiskerfi og ráðast að menntakerfinu enn frekar! Rekum þessa ríkisstjórn af höndum okkar því hún er vanhæf, jafn vanhæf og ...
Auðun Gíslason
16. Maí 2010

... Deilurnar um Stjórnarráðið eru margþættar, lúta að stjórnsýslunni, jafnvel umsókn okkar að ESB. Svo telja margir í VG. Því fer fjarri að Jón Bjarnason sé einn og yfirgefinn að berjast fyrir vönduðum vinnubrögðum þegar kemur að breytingum innan stjórnsýslunnar. Það er nokkuð sem samflokksmenn hans hafa haldið að Alþingi og framkvæmdavaldi alla tíð. Sem formaður BSRB hef ég iðulega komið að því að binda óhnýtta enda eftir flaustursleg vinnubrögð við skipulagsbreytingar. Reynslan sýnir að ...
13. Maí 2010
Merkilegt nokk þá blasir við manni sú staðreynd að allnokkrir þingmenn úr liði samstarfsflokksins eru að gæla við þá staðreynd að umboð þeirra til samkundunnar muni fást endurnýjað. Skýrleiki birtingarforms fáránleikans getur svo sannarlega verið með mismunandi hætti. Alla vega þykir mér það þegar æðstaráð samstarfsflokksins hefur neytt þjóðina til umsóknaraðildar að EB, gengst ekki við ábyrgð varðandi tillögu um 400.000 kr launahækkun til handa seðlabankastjóra, fer offari í að stofna atvinnuvegaráðuneyti með tilheyrandi hroðvirkni og lausatökum ásamt því að túlka hugmyndafræðina að baki Skjaldborginni með þeim hætti sem ...
Kv. Óskar K Guðmundsson, fisksali
11. Maí 2010
Ríkisstjórnar generálarnir vilja sparnað í stjórnkerfinu. 350 milljónir gætu sparast við að losna við yfirmenn. Hægt væri að ná þessum sparnaði strax með því að segja upp þessum óþörfu og dýru yfirmönnum. Væntanlega er átt við ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra. Óþarft fólk. Situr og leggur kapal.
Hreinn K
11. Maí 2010
Styrkur orðsins SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA útvatnast alveg svakalega við það að verða Atvinnumálaráðherra. Ég er einfaldlega á móti því að JÓNI BJARNASYNI verði skákað út fyrir slíkt. Ég vil VG út, boða til kosninga strax, ég er hræddur um að það yrði mikið um nýskráningar á skútunni þeirri er næst siglir um sali Alþingis.
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
11. Maí 2010
...Það sem er alvarlegt við þetta er hvað þetta segir okkur um lýðræðislega umræðu. Það er kastað fram einhverju bulli í pöpulinn og pólitísk umræða mótast af því í framhaldinu. Hin raunverulegu rök koma aldrei fram. Það þýðir líka að stjórnmálamenn verja aldrei gerðir sínar. Það má taka dæmi af því þegar 16 milljarðar af skattfé voru settir í tryggingafélag í vandræðum, til að forða því frá að fara á hausinn. Ég gef mér að menn hafi skoðað öll þau mál í þaula þó yfirlýsingin sem gefin var opinberlega væri einföld: það væri dýrara að láta þá ekki hafa peninginn. Menn svara bara út í hött og gera ráð fyrir að fá frið fyrir spurningum. Þetta er hámark valdhrokans.
Gústaf
11. Maí 2010
Birtist í DV 10.05.10.

...Þessi álitamál eru sem áður segir afgreidd í starfshópi ríkisstjórnarinnar á þann veg að forræði forsætisráðherra eigi að efla. Þetta þarf að ræða miklu betur en gert er í skýrslunni því einfalt er málið ekki. Sama gildir um staðhæfingar sem fram eru settar um breytingar á Stjórnarráðinu. Þar er margt sagt sem þarf alla vega miklu meiri skoðunar við. Þá vil ég einnig nefna afstöðuna til stjórnunar almennt. Hrunverjarnir töluðu einsog við munum mikið um hina miklu stjórnendur sem allt áttu að vita og kunna. Allir voru þeir á alls kyns hvatalaunum og bónusum. Aðrir áttu að hlýða leiðsögn þeirra - vafningalaust. Á Alþingi voru sömu formúlur uppi....
10. Maí 2010

...Á Íslandi á enginn stjórnmálamaður sér von um velgengni í pólitík nema hann veiti samþykki fyrir því að allt sé uppi á borðum og að enginn vafi sé á því að fjárhagslegir hagsmunir stjórnmálamanna ráði ekki gjörðum þeirra. Að þessu leyti er afstaðan í Borgarráði spegill á almannaviljann. Þjóðfélagið er nefnilega að vakna. Enn er þó værukærð á sumum fjölmiðlum. Ekki minnist ég þess að sjá um þetta frétt í Sjónvarpinu svo dæmi sé tekið. En hafi Þorleifur Gunnlaugsson þakkir fyrir frumkvæðið, borgarráð fyrir samþykkið...
8. Maí 2010
Yfirlýsingar forsætisráðherra landsins eru til þess fallnar að ónýta öll mál sem höfðuð verða gegn svindlurum hrunsins. Hún lýsir því yfir að hún "fagni handtökunum"! Hvorugur þessara manna hefur verið ákærður, hvað þá dæmdur. Ef ég væri tekinn höndum af lögreglunni, vegna gruns um brot og forsætisráðherra landsins og æðsti handhafi framkvæmdavaldsins lýsti ánægju sinni með handtökuna, þætti mér einsýnt að ég myndi ekki njóta sanngjarnar málsferðar. Forsætisráðherra hlýtur að ...
Hreinn K
6. Maí 2010
Af hverju ertu undrandi? ... Leiðitamur bankastjóri. Hver er orðinn stjórnarformaður?
Ólafur Sveinsson
5. Maí 2010
Birna Einarsdóttir, bankastjóri, sinnir held ég því starfi vel sem hún er ráðin til. Hennar er að ávaxta pund þess sem er skráður fyrir Íslandsbanka, sá sem á bankann, eða hefur leyfi til að reka hann. Ef bankastjóra sýndist svo getur hann gefið samþykki að setja duglegan, sunnlenskan bónda út á Guð og gaddinn, með fjölskyldu. Eins konar fjölskyldupakki Íslandsbanka. Eigandinn eða rekandi bankans þarf jú sitt. Nú tilkynna þau Birna og Árni Magnússon, fyrrum aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, og einn bakvarðanna í REY-máli Sjálfstæðis-og Framsóknarflokks, að þau hyggist opna kontór í New York. Kannske þau opni aftur búlluna sem þau kynntu fyrir þremur árum. Nei, þá var það útrás. Nú stendur til að liðka fyrir innrás, eða jafnvel...
Ólína
3. Maí 2010

Íslandsbanki hefur skýrt frá því að hann sé að setja upp útibú í New York til að aðstoða fjárfesta til að komast yfir auðlindir Íslands, sjávarútveginn og orkulindirnar. Vísir.is segir svona frá: „Íslandsbanki ætlar að hasla sér völl í Bandaríkjunum með fjármálaráðgjöf við fjárfesta í sjávarútvegi og jarðvarmaorku. Til stendur að opna skrifstofu í New York og segir bankastjórinn (Birna Einarsdóttir) að ímynd Íslands í þessum geirum hafi ekki laskast þrátt fyrir bankahrun...
3. Maí 2010
...Íslenskir fjölmiðlar eh (eh = eftir hrun) hafa lítið breyst. Góðir í spjallinu, en minna fyrir að upplýsa af nákvæmni sem er óháð starfsmannafjölda. Af hverju hafa þeir sagt okkur svona lítið um þróun skattamála á Grikklandi í aldarfjórðung? Af hverju leggja þeir svona mikla áherslu að þvæla um ríflegan lífeyrisrétt Grikkja? Óþarfi að kóa með stjórnvöldum sem sitja nú á sakamannabekk fyrir vanræslu. Það vantar meiri metnað í fjölmiðlana. Það vantar meiri gagnrýni í fjölmiðlana. Það er svo sérstakt rannsóknarefni af hverju enginn munur er á RÚV og Mogga í þessum efnum. Það þarf að bera saman samfélags- og skattkerfisþróun hér og í Grikklandi í aldarfjórðung. Kannske eitthvað sé líkt með útvörðunum í austri og vestri, annað en glæsileg bókmenntahefð fortíðar, ekki veit ég...
Jóna Guðrún
1. Maí 2010

Heimur peningafrjálshyggjunnar riðar til falls. En ekki meira en svo að peningaöflin læsa sig nú saman af meiri krafti en oftast áður til að beina hruninu inn í gamalkunnan farveg: Að láta almenning blæða fyrir glæfra þeirra og mistök. Það ríður á að verkalýðshreyfingin og félagsleg öfl i stjórnmálum standi vaktina og snúi taflinu upp í þá sókn sem ein er ásættanleg: Að skapa réttlátt samfélag frjálsra manna, karla og kvenna, ungra og aldinna. Í BSRB tíðindum sem voru að koma út vildi ég einmitt láta þessa hugsun vera...
1. Maí 2010
Verslunin Borg lokar ekki.Opin. Nýtt fólk. Tökum vel á móti þeim.
Kveðjur,
Gísli
1. Maí 2010
Þú stingur upp á því í pistli þínum að við veitum öll Jóhönnu liðsinni okkar í því að þjóðin sjálf megi ákveða hvaða málum er vísað til þjóðaratkvæðis. Ég vil ekki styðja Jóhönnu í neinu sem tengist þjóðaratkvæðagreiðslu fyrirfram. Hennar viðhorf til að vísa frá sér ákvörðunarvaldi hefur komið berlega í ljós. Ég gæti best trúað henni til að ...
Agnes
30. Apríl 2010

Austarlega i Grímsnesinu er þessi notalega verslun sem ég hef ófáum sinnum lagt leið mína í. Gott viðmót alltaf þar. Nú er hún að loka. Ég þakka starfsfólkinu fyrir mig og lýsi eftirsjá. Ég trúi ekki öðru en þarna sé grundvöllur fyrir verslunarrekstur því orlofsbyggðin á þessum slóðum þenst út. Reyndar eru fleiri ágætar verslanir á þessu svæði, í Reykholti og víðar. En verslunin Borg er annað og meira en búð. Hún er fulltrúi hins óstaðlaða Íslands. Staðlaða Ísland er búið til með reglustiku á miðstýrðu teikniborði stóru olíufélaganna...
28. Apríl 2010
...Iðnaðarmálagjald stenst ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu...Það er ekki hægt að sjá hvernig þetta mál snertir ríkið. Þetta er bara málefni þessara félagsmanna í samtökum atvinnurekenda. Að þetta skuli hafa viðgengist svona lengi er bara yfirgengilegt og sýnir bara hvað launamenn hafa verið berskjaldaðir gagnvart atvinnurekendum og óvinveittu ríkisvaldi. Jafnvel Hæstiréttur gat ekki varið rétt launamanna að þessu leyti.
Kristbjörn Árnason
27. Apríl 2010

...Ég spái því að í framtíðinni muni fólk horfa með forundran til okkar tíðar þegar enn er til fjölmargt fólk sem vill meina þjóðinni um þennan sjálfsagða rétt og áttar sig ekki á því að almenningur á réttinn - hann er það sem við köllum mannréttindi. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ákvað með þessari yfirlýsingu að eiga hlutdeild í framtíðinni; lýðræðisþjóðfélaginu sem er handan við hornið. Nú er að sýna viljann í verki. Öll þurfum við að lyfta undir horn með forsætisráðherra í lýðræðisbaráttunni...
27. Apríl 2010
Í ljósi umræðu um styrkveitingar fyrirtækja til þingmanna, sem í sumum tilfellum þykja býsna ríflegar, hefur komið upp umræða um hvort ekki væri hægt að koma á ákveðnu kerfi við þetta. Hugmyndin er reyndar fengin að láni frá Formúlu 1 og Nascar kappakstrinum en mundi henta vel fyrir „styrkþæga" Íslenska þingmenn. Hugmyndin er semsagt sú að styrþægir þingmenn verði með ásaumuð logo styrkveitenda sinna á jakkafötunum, nú eða drögtunum eftir kyni auðvitað, svipað og Formúla 1 og ...
Aðalsteinn Stefánsson
25. Apríl 2010

Sennilega er Þorsteinn Pálsson, fyrrum ritstjóri og pólitíkus, sannur íhaldsmaður. Hann er íhaldsmaður í þeim skilningi að í Fréttablaðspistli sínum í dag heldur hann sig við nákvæmlega það sama og hann sagði í síðustu viku, og einnig þarsíðustu. Mér sýnist orðalagið meira að segja eins - alla vega er boðskapurinn sá sami. Hann er sá að í landinu sitji ágæt ríkisstjórn - afsakið, í landinu sæti ágæt ríkisstjórn, ef ekki væru nokkrir vinstri sinnar í VG sem þvinguðu hana þráfaldlega frá því sem Þorsteinn kallar „hófsemdarhyggju" . Þorsteinn grætur það í Fréttablaðsgrein sinni að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra vilji ekki starfa í anda „Blairismans" heldur hafa ...
25. Apríl 2010
Tveir gegndu starfi sendiherra í Kaupmannahöfn fyrir, í og eftir mikla útrás íslenskra viðskiptamanna til Danmerkur frá 2002 til 2008. Þetta eru þeir Þorsteinn Pálsson, pistlahöfundur Fréttablaðins, sem lét af störfum árið 2005, þegar eftirmaðurinn mætti á Norður-Atlantshafsbryggju. Sá er Svavar Gestsson, fyrrum aðalsamningamaður Íslands í Ice-save deilunni. Hann lét svo af störfum í desember síðast liðnum. Svavar þurfti sem sé að taka á móti Viðskiptaráði Íslands, forstjórum bankanna, fulltrúm fjármálaráðuneytis og setja upp fyrir þessa aðila fundi, þegar þessi kransakökutoppur íslenska kaptalísmans tók að sér að ljúga Dani fulla um íslenska efnahagsundrið. Ég heyrði þessa sendiherra krúnka saman eins og turtildúfur í útsetningu Sigurjóns Egilssonar á ...
Ólína
25. Apríl 2010
Í blöðunum í morgun ríða tveir stjórnmálamenn á eftirlaunum röftum. Það eru þeir Svavar Gestsson sem telja frammistöðu Ólafs Ragnars í embætti forseta svo skaðlega að það þurfi að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig. Svavar tiltók raunar í greinarstúf í Fréttablaðinu um daginn að væri forseti sem ekki væri sameiningarákn hefði brugðist hlutverki sínu. Nú vil ég greina á milli framgöngu Ólafs og hlutverks forsetaembættisins. Sjálfum finnst mér Ólafur hafa gert það sem þurfti til að veita ráðherraræðinu aðhald. Þar er um að ræða stjórnskipulegan óskapnað sem Davíð á e.t.v heiðurinn af að keyra í gegn á ...
Árni V.
25. Apríl 2010

...Sjálfur held ég að opin umræða sé vænlegri til árangurs en regluverk. Opin lýðræðisleg umræða er út af fyrir sig líkleg til að móta góðan tíðaranda gagnstætt því vinnulagi sem mótast í skugganum jafnvel þótt menn hafi þar einhverjar reglur að styðjast við. Tveir fyrrverandi sendiherrar, þeir Svavar Gestsson og Þorsteinn Pálsson, komu fram í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag og voru þar sammála um að setja þurfi embætti forseta Íslands ný lög og siðareglur. Kannski er þetta góð hugmynd. Nema hvað rótin að henni þykir mér ekki vísa inn í framtíðina. Báðir hafa þeir ...
25. Apríl 2010
Birtist í Fréttablaðinu 24.04.10

...Hugaræsingin sem heltekið hefur margt fjölmiðlafólk og fleiri í þessu Kötlumáli er af nákvæmlega sama toga og átti sér stað í aðdraganda hrunsins, nema nú með öfugum formerkjum. Það sem forsetinn gerir og segir þykir nú ekki að öllu leyti gott, heldur að öllu leyti slæmt. Þótt menn viti innst inni hvað rétt er, þá virðist mér alltof margir - nú sem fyrr- gera það sem auðveldast er í umræðunni: Láta berast með straumnum. Lærdómur hrunsins er að...
24. Apríl 2010

Gagnrýni í garð Alþingis fyrir sinnuleysi í uppgjörinu eftir hrunið er ekki alls kostar sanngjörn. Rannsóknarskýrslan sjálf er til marks um vilja Alþingis til að kryfja málin til mergjar. Enda þótt ýmsar brotlamir séu á skýrslunni - og nauðsynlegt er að lagfæra þær - þá er hún mikilvæg af tveimur ástæðum fyrst og fremst að mínu mati. Í fyrsta lagi kortleggur skýrslan umfang misferlis í fjármálaheiminum og tengslum hans við stjórnmálin. Í örðu lagi er skýrslan umræðugrundvöllur fyrir breytt vinnulag í stjórnsýslunni og í stjórnmálum. Hún er þannig upphaf en ekki endir. Rannsóknarvinnunni þarf að halda áfram. Það skortir til dæmis verulega á að ...
24. Apríl 2010
...Ósjálfrátt var ég komin tvö til þrjú ár aftur í tímann og mér datt í hug útrás Geirs H. Harrdes og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í austurveg og vestur sem farin var í föruneyti fyrirtækja og útflutningsráðs þegar íslensk fyrirtæki, einkum bankar lentu í andróðri erlendis. - Við þurfum að stýra umfjöllun erlendra fjölmiðla um bankana. Koma á framfæri réttum upplýsingum. Það var ekkert að bönkunum, þetta snérist um "réttar upplýsingar". Flugvöllum var lokað, flugbann sett á í Evrópu með skelfilegum afleiðingum fyrir alþjóðlega "ferðaþjónustuaðila". Þörfin fyrir að "miðla réttum upplýsingu til alþjóðlegra fjölmiðla" varð brennandi fyrir "Ísland". Spunamenn voru kallaðir til, settir voru upp samráðshópar stjórnvalda og iðnaðarins. Fundir stóðu lengi dags, allt framá kvöld. Það þurfti að stýra "erlendum fjölmiðlum". Þeir máttu ekki...
Ólína
24. Apríl 2010
Á mínum vinnustað hefur þú árum saman verið kallaður leiðinlegasti maður á Íslandi. Alltaf á móti. Á móti framförum, frelsi og hagsæld. Alltaf með múður. Ég hef nú ekki haldið registur yfir hvaða atriði það eru en það er alveg ljóst að eins og hlutir hafa þróast hefði mátt taka tillit til þeirra sjónarmiða sem þú hafðir fram að færa. Eitt hefur ekki breyst að margir fjölmiðlar kynna sjónarmið þín enn til sögunnar undir sömu formerkjum þess sem alltaf er á móti og frekar svona leiðinlegur eiginlega. Þú ert á móti Icesave, háum vöxtum, aukinni skuldsetningu og einvherju fleiru. Allt er þetta túlkað sem ....
Kollur
24. Apríl 2010
Brotthvarf þitt og Árna Þórs af þingi vekur margar spurningar.Eru þið í veikindaleyfi eða eru óþægileg mál að koma inn á þing?? Þetta þarftu vinsamlega að skýra fyrir þjóðinni...
ÞG
23. Apríl 2010
...Ég veit það Ögmundur, að þú hefur verið -og ert- góður talsmaður virks lýðræðis...EN, nú er það svo, að ekkert í ríkis-valda-kerfinu er þeirrar gerðar. Við búum enn við ólýðræðislegt tveggja turna samkrull, sem nauðgar trekk í trekk góðum vonum okkar, óbreytts almennings. Því segi ég hér mína umbúðalausu skoðun, að ANNAÐ HVORT kreistir þú hreðjar...só tú spík..Jóhönnu og Steingríms og nærð fram vilja hins raunverulega meirihluta, EÐA, þú sprengir þessa ríkisstjórn, því engu hefur hún skilað nema áframhaldi spillingar blinds valdabríma tveggja turna, sem fyrr. Og hvað ef hún er sprengd? Þá er það skoðun mín...
Pétur Örn Björnsson
23. Apríl 2010
Það er merkilegt að heyra þá sem hvorki komu upp stunu né hósta, þegar mikið lá við að skýra út eðli Icesave deilunnar erlendis, fara hamförum gegn forseta Íslands, vegna ummæla hans um að rétt sé að vera viðbúinn Kötlugosi, í fyrirsjáanlegri framtíð. Ferðaiðnaðurinn á Íslandi er sterkur og vaxandi, og meðal mikilvægra stuðningsmanna er einmitt forseti Íslands, sem lætur ekkert færi ónotað til að tala fyrir Ísland. Ef menn eru í alvöru að rífast um það hvort minnast megi á líkurnar á Kötlugosi, þá er þar á ferðinni móðursýki á háu stigi, og lyktar sú umræða af ...
Hreinn K
22. Apríl 2010
Þú bendir á að Björgvin G. Sigurðsson hafi verið gerður að blóraböggli fyrir vandamál sem á rætur sínar mun víðar. Það er vissulega rétt að ekki eigi að hafa menn fyrir rangri sök, og því er sú reglan viðhöfð að álíta menn saklausa uns sekt er sönnuð. En sú regla tíðkast ekki hjá dómstóli almenningsálitsins, og því er mikilvægt að það sé ekki sá dómstóll sem kveður upp endanlegan úrskurð. Ákæra er ekki dómur, og það hlýtur að vera eðlilegt að maður sem er borinn alvarlegum ásökunum fái tækifæri til að verja sig gegn...
Herbert Snorrason
22. Apríl 2010

„Lilja Mósesdóttir er í litlum takti við aðra í flokknum". Þetta segir í fréttaskýringu um pólitíkina í Fréttablaðinu nú um helgina. Flokkurinn, sem vísað er til, er að sjálfsögðu Vinstrihreyfingin grænt framboð. Þessi fullyrðing stenst ekki. Eða hvað er átt við? Lilja Mósesdóttir hefur staðið sig frábærlega sem formaður Viðskiptanefndar Alþingis, fulltrúi í Efnahags- og skattanefnd, fulltrúi Íslands í Evrópuráðinu og fjölmörgum vinnunefndum Alþingis. Þá er hún ötul baráttukona fyrir því að koma böndum á sukk og spillingu í bönkunum. Ég efast um að nokkur þingmaður hafi staðið sig eins vel og hún í viðleitni til að rétta stöðu skuldugs fólks. Hún er alla vega í góðum ...
22. Apríl 2010

Bragi Björnsson skátahöfðingi , sagði í ræðu við hefðbundna skátamessu í Hallgrímskirkju í dag, sumardaginn fyrsta, að þegar hann héldi á vit náttúrunnar í útilegum sumarsins hyrfu allar áhyggjur sem dögg fyrir sólu enda væri bjartsýninni tjaldað. Vel mælt og uppörvandi hugsun. Gömul þjóðtrú leggst á sveif með bjartsýnisfólki í dag því samkvæmt henni veit á gott þegar vetur og sumar frjósa saman. Það gerðist að þessu sinni. Þannig að margfalt tilefni er til að brosa breitt í dag og óska hvert öðru gleðilegs sumars. Jafnframt hljótum við öll að hugsa til þeirra sem...
22. Apríl 2010
...Ég get tekið undir hvert orð sem þú ritar í pistli þínum "LÝÐRÆÐIÐ ÞARF NÆRINGU - STJÓRNVÖLDIN AÐHALD". Það er nú það óvenjulega í stöðunni að við skulum nú loksins vera sammála eftir öll þessi ár. Ég, sjálfstæðismaðurinn og þú í Vinstri Grænum. Hvað er að gerast í íslenskum stjórnmálum? Við áttum reyndar afar gott samstarf innan BSRB til margra ára. Það sem getur komið okkur, þjóðinni, út úr þessum vandræðum er að ...
Páll Svavarsson
21. Apríl 2010
Vel getur verið að mörgum þyki Jóhönnu launin þetta svaka laun en í Evrópu eru laun ýmissa fræðinga í gagnagrunnum og etc á um 80-100 þús pund á ári. Það hefði átt að hækka laun Jóhönnu upp í 1,5m. Það er því líklegt að á krefjandi vinnustöðum verði ekki ráðnir þeir hæfustu og bestu heldur sá ódýrasti sem líklega er þá með BSc gráðu....
Nafnlaus
21. Apríl 2010
...Satt er það og rétt, að Indriði hefur í umboði fjármálaráðherra leitað leiða til að minnka skuldir þjóðarinnar efir óráðsíu Moggaritstjórans. Skattar voru hækkaðir við síðustu álagningu en þeir hafa samt ekki náð þeim hæðum sem skattar voru í lengstum, á forsætisráðherratíma Davíðs Oddsonar. Skattar hafa einmitt aldrei verið eins háir og þeir voru þá. Davíð Oddsson er ótvíræður skattakóngur Íslands. Hann er alveg ótrúlegur aumingjaskapurinn hjá þessu Morgunblaðssnepli, að hjóla ekki bara í stjórnmálamennina, þá Steingrím J Sigfússon og eða í Ögmund Jónasson og ræða við þá um skattamálin og láta í friði æruverðugan eftirlaunamann sem skilað hefur góðu starfi.
Kristbjörn Árnason
20. Apríl 2010
...Þau sem eru Ólafi Ragnari reið fyrir að greiða götu lýðræðisins skammast núna í hans garð. Sama fólk og þagði allan útrásartímann notar núna Kötlu-ummæli forsetans til að ná sér niðri á honum. Ekki beinlínis stórmannlegt. Gagnrýni vegna Kötlu er í reynd gagnrýni á þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave!
Jóel A.
20. Apríl 2010
...Sumir fengu aflétt ábyrgðum á milljörðum króna, til að mynda eiginmaður varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Sú skýring sem stjórnendur bankans gáfu eftir að þetta kom fram í dagsljósið, var sú að þeir voru að forða því að fólkið færi allt að reyna að selja sín bréf, og við það mundi hlutabréfaverðið snarfalla. Þetta er svosem skýring sem hægt væri að fallast á , ef að hún væri bara ekki hrein og klár lygi. Stjórnendur bankans vissu allt árið 2008 hvert stefndi...
Sveinn Elías Hansson
20. Apríl 2010

...Við þurfum líka að stappa stálinu í okkar eigin stjórnvöld. Standa að baki þeim í kröfum um opin og lýðræðisleg samskipti við umheiminn. Kannski hafa alltof margir sofið á verðinum hvað þetta snertir. Í framtíðinni verður það vonandi óhugsandi að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum séu gefnar skuldbindingar um íslensk innanríkismál - varðandi skipulag Íbúðalánasjóðs, aðkomu að skuldavanda heimilanna - eða milliríkjasamningum, án þess að slíkt fái opna, gagnsæja og lýðræðislega umræðu í ríkisstjórn landsins, á Alþingi og í samfélaginu almennt. Því miður hefur sú ekki orðið raunin þegar gengið hefur verið frá skilmálum við AGS.
Og nú eina ferðina enn. Það er óásættanlegt. Breytt vinnulag...
...
19. Apríl 2010
Nýverið hjó ég eftir því að skattrannsóknarstjóri stóð agndofa af undrun yfir því hve menn væru orðnir færir og snöggir að skjóta undan fjármunum. Vísa ég þar til umrædds atviks í tilfelli Baldurs Guðnasonar fyrrv. forstjóra Eimskips. Embættismaður slíkur sem haft hefur til umráða 18 mánuði til aðgerða og athafna ætti að mínu viti í dag að hafa titilinn fyrrv. skattrannsóknarstjóri. Hvílíkt borðálegg, að bjóða alþýðu manna uppá slík ummæli.
Eina svölunin sem hægt er að veita hinum almenna streðandi manni, sem hvorki hefur aðgang að kaupréttum né kennitöluflakki svo ekki sé talað um runustofnun eignarhaldsfélaga, er að þessum aðilum sé atað uppúr drullunni svo undan svíði. Myndlíking sem þessi túlkar reyndar mjög væga meðhöndlun aðila. Hætta síðan ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
18. Apríl 2010
...Að endingu vil ég fá að nefna annað dæmi um tilraun til kattaþvottar sem eru ummæli Jóhönnu um ábyrgð Samfylkingar. Þar reiðir hún fram frasa sem hún notaði síðasta haust um að ábyrgð Samfylkingar sé takmörkuð við það að hafa verið í ríkisstjórn þar sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði mistök. Þau eru búin að fórna Björgvin og nú á að kappkosta að fleiri Samfylkingarmenn þurfi ekki að svara til ábyrgðar. Niðurstaðan af þessu er sú að skýrslan gerir ekkert gagn ef við nemum staðar hér. Kjósendur geta bara farið fram á einn hlut og það er að fá að kjósa.
Árni V.
18. Apríl 2010
Ég las ræðu Ingibjargar Sólrunar á netinu rétt í þessu. Þar skýrir hún frá því að hún brást sjálfri sé, flokknum og kjósendum flokksins. Í þessari röð. Ég hélt einvhernveginn að ráðherrar störfuðu fyrir víðari hagsmuni en bara flokksins og stuðningsmanna hans. Svo gagnrýnir hún í næstu setningu helmingaskipti við sölu bankanna þar sem flokkshagsmunir réðu öllu. Hennar hugsun virðist bundin við sama flokksklafann.
Agnes
18. Apríl 2010
Það er margar góðar greinar og lesendabréf á vefsíðunni þinni og það er gleðilegt að sjá okkur venjulegt alþýðufólk hafa vettvang sem við getum viðrað áhyggjur og skoðanir okkar, en það veitir þú okkur og átt þakklæti fyrir Ögmundur! Árni Þorsteinsson... bendir réttilega á að Atli Gíslason alþingismaður sem mörg okkar hafa byggt vonir með innan um hálfgerðan furðulýð á Alþingi, hafi varað menn við „að stíga afskaplega varlega til jarðar varðandi sýkn eða sekt þeirra sem þingnefndin mun fjalla um." Árni er eðlilega undrandi og fyrir ...
Úlfur
17. Apríl 2010
...En hvað gerir valdakerfi sem stendur sig svona illa? Hvaða gera ráðherrarnir og alþingismennirnir sem bera ábyrgð á því hvernig komið er? Hvað gera þeir sem hafa búið til og stuðlað að gjá "milli þings og þjóðar"? Hvaða gera þeir sem ekki höfðu hugmyndaflug til að lesa í ástæðurnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni um Ice-save, þeir sem bræði sinnar vegna gátu ekki skilið það sem forsetinn var að segja? Valdakerfið féll á prófinu. Laganemar sem falla á fyrsta ári taka fyrsta árið auðvitað aftur. Frammistaða valdakerfisins er slík að það verður að fara taka upp fyrsta árið. Hvað þýðir það. Svarið er einfalt: Kosningar. Af hverju? Svar...
Jóna Guðrún
17. Apríl 2010
Ég sé að þú ert þeirrar skoðunar að fara þurfi alvarlega yfir þær staðreyndarvillur sem forsetinn benti á, sem fram komu í skýrslunni um forsetaembættið. Ég kann mjög vel við tilburði þína að verja þá sem liggja undir höggi, en forsetinn sér um sig. Mér finnst óþarfi að þú verjir hann. Hann hefur sýnt það að hann þarf enga skjaldborg. Embættisfærslur hans í hruninu eru óþolandi og þar fórst þú fremstur í flokki og gagnrýndir. Þegar það var ekki vinsælt. Haltu þér við það. Djúp lýðræðisannfæring Ólafs Ragnars var ekki ástæða fyrir höfnun Icesave samnings. Hann var að bjarga eigin skinni. Hann gerði það reyndar vel, en það breytir því ekki að ...
Óháður kjósandi
17. Apríl 2010
Þú talar um í nýjustu skrifum þínum að heimilin séu friðhelg, sammála því. En þegar þú talar um heimili sakborninga sem frömdu glæp gagnvart allri þjóðinni séu heilög þá finnst mér þú vera á villigötum. Hræsni og djöfulsskapur þeirra hjóna eins og margra annarra hefur leitt til þess að lögreglan hefur borið út heilu fjölskyldurnar vegna ógoldinna skulda. Hvar er þá friðhelgin? Hvar er þá heilagleikinn? Ég tel að viðhorf þitt beri vitni um að þeir sem eru í efstu lögum samfélagsins skynji ekki ...
Ágúst Valves Jóhannesson
17. Apríl 2010
Björgvin er formlega ábyrgur. Ég vona að málið komi fyrir Landsdóm og það verður að gera það. Björgvin gerir augljós mistök sem eru þau að segja ekki strax af sér. Flokksforingi hans heldur honum utan við málaflokkinn (með samþykki forsætisráðherra). Það er næg ástæða til afsagnar. það er dapurlegt þegar einn helsti talsmaður umræðustjórnmála Ingibjörg Sólrún) kemur fram sem einn helsti fulltrúi foringjastjórnmála.
Hrafn Arnarsson
16. Apríl 2010

Krafa fólks sem er að missa heimil sín er að þau verði friðhelg, að ekki sé hægt að ganga að þeim. Krafan er
: Hlífum heimilunum. Þetta er krafa um mannréttindi. Og það eru mannréttindin sem eiga alltaf að verða okkur efst í huga. Líka mannréttindi þeirra sem verða nú fyrir gagnrýni í þjóðfélaginu vegna tengsla við orsakir hrunsins, beinna eða óbeinna. Mótmæli í þjóðfélaginu á ekki að kæfa. Mótmæli eru réttmæt. En spurnnigin er hvar og hvernig þessi mótmæli eru í frammi höfð. Nú berast fréttir af mótmælum við heimili fólks. Þessu vil ég andæfa.
Hafa ber í huga gamla vísdómsreglu...
16. Apríl 2010
Veikasti hlekkurinn í rannsóknaskýrslunni virðist vera 8. bindið, saminn af siðfræðingum og fyrrv. stjórnmálamanni. Þar virðist mér ónákvæmni vera talsverð. Forseti Íslands hefur bent á nokkrar staðreyndavillur sem einhverjir fjölmiðlar hafa tekið upp og gert sér mat úr og í fjölmiðlakaflanum gætir ónákvæmni og misskilnings. Þar fyrir utan virðast höfundar forðast að halda á djúpið í skýringum sínum og greiningu en halda sig fremur á grunnsævi. Það er verra því hér var upplagt tækifæri að greina og gagnrýna fjölmiðla almennt og fyrir þátt sinn í spuna fjármálaaflanna. Í skýrslunni er réttlega bent á að fjölmiðlar hér leggja ekki ...
Ólína
16. Apríl 2010
Það er sannarlega með ólíkindum að fylgjast með umræðunni „Hrunskúrkur ársins" Margir eru nefndir en þó sumir meira en aðrir. Hæst er hrópað nafn Davíðs Oddsonar síðan Björgvins Sigurðssonar þá Geirs H Haarde og jafnvel Ólafs Ragnars Grímssonar. Reyndar hefur nafn Björgvins verið hrópað svo oft og svo mikið, ekki aðeins af lýðnum heldur einnig af ráðamönnum sem hafa kosið að nota hann sem heppilegan blóraböggul til að hylma yfir eigin gerðir, að vesalings Björgvin er búinn að segja af sér, ekki bara einu sinni heldur þrisvar. Geri aðrir betur. En mér hefur fundist gleymast í öllum þessum nornaveiðum hverjir hinir raunverulegu skúrkar voru. Voru það stjónmálamennirnir, sem sannarlega voru ...
Aðalsteinn Stefánsson
15. Apríl 2010

...En er þetta rétt? Eða kannski öllu heldur, er þetta réttlátt? Það er einhverju ábótavant að þegar allir vita innst inni hvað rétt er, en „formið" segir annað. Þess vegna spyr ég: Er rétt að hengja Björgvin Sigurðsson upp í hæsta gálga en hlífa öllum hinum sem raunverulega komu að ákvarðanatöku, voru í hringiðunni, sátu á fundunum, og voru því ábyrgir með aðgerðum sínum og aðgerðaleysi eftir atvikum. Björgvin Sigurðsson átti vissulega að vita hvað var að gerast. Það gerði hann ekki. Hvað hlutdeild hans snertir þá var öll þáverandi ríkisstjórn meðsek. Hún ræddi þessi mál ekki einu sinni á fundum sínum! Sekt hennar er fólgin í ....
15. Apríl 2010
Hef verið lesa rannsóknaskýrsluna Alþingis. Í fjölmiðlakafla og siðfræðikafla kemur það mér nokkuð á óvart að hvergi skyldi getið varnaðarorða, gagnrýni og greiningar sem fram hefur komið á þessari vefsíðu en hún er jafn gömul einkavæðingu bankanna. Máli mínu til stuðnings langar mig til að biðja þig að birta aftur grein frá 1. nóvember 2006 um bankana. Þú matt mjög gjarnan birta svör þín við bréfi mínu enda varð af mikill hvellur í bloggheimum. Gengu þá fram menn í málsvörn fyrir bankana sem nú ná ekki upp í nef sér af hneykslan á siðferðisbresti starfsmanna bankanna og skiptir þá engu hvort í hlut átti Egill eða Árni...
Ólína
14. Apríl 2010

...Í dag var ítarlegt viðtal við forseta Íslands í fjölmiðlum. Þar hélt hann því fram að í veigamiklum atriðum hefði verið farið ranglega með staðreyndir um forsetaembættið í Rannsóknarskýrslunni. Þetta er alvarlegt ef rétt er. En þó ekki alvarlegra en svo að hægt er að bæta um með því að koma við leiðréttingum. Það verður Alþingi að sjá til að verði gert og þá einnig varðandi aðra þætti sem misfarið er með í skýrslunni. þetta þarf að gerast með markvissum hætti. Góða skýrslu má ekki eyðileggja með aðgerðaleysi í þessu efni. Heildarmyndin sem dregin er upp í skýrslunni hygg ég að sé rétt. Á hana getur hins vegar fallið skuggi ef rangfærslur eru ekki leiðréttar. Hafa skal það sem sannara reynist var sagt forðum og á það...
14. Apríl 2010
"Ef þú og andófsliðið í VG getið ekki hagað ykkur einsog fólk, verið fulltrúar okkar sem treystum ykkur til að standa í lappirnar þá eigið þið að víkja fyrir varaþingmönnum ykkar." Það eru ekki alltaf jólin skaut sér í huga minn þegar Sveinn G. setti fram þessa skoðun sína á síðunni hjá þér. Sveinn G. hefur greinilega ekki mikið inngrip í stjórnskipan landsins og hefði betur setið við fótskör ...
Stefán
14. Apríl 2010
Versta fjármálakreppa í seinni tíma sögu Danmerkur ríður nú yfir í þvísa landi. Þar hefur grunnskólakennari í grunnlaun um 700 þúsund krónur á mánuði, eða um 8 milljónir króna á ári. Grunnskólakennarar búa sig nú undir mikinn tekjusamdrátt. Tekjusamdrátturinn danski nemur um 5 þúsund dönskum krónum á ári, eða 115 þúsund íslenskum krónur, á ári. Verkalýðshreyfingin danska hefur áhyggjur og veltir fyrir sér aðgerðum enda talið að verið sé að velta afleiðingum rangra ákvarðana yfirstéttarinnar yfir á almenning. Ætli útsýnið yfir á Esjuna sé ekki ...
Jóna Guðrún
14. Apríl 2010
....En góðir hlutir gerast hægt á Íslandi, þ.e.a.s. ef ráðmenn hafa hag að þeim. Til umhugsunar eru hér settar fram þrjár spurningar. Hvaða stefnumörku er svo lýst svo í yfirlýsingu hvaða ríkisstjórnar? "Stýrihópurinn hefur unnið drög að verkefnisáætlun sem skiptist í nokkra meginþætti og fela m.a. í sér víðtækt samráð um mótun valkosta fyrir framtíðina og þau gildi sem liggja eiga til grundvallar framtíðarsýn íslensku þjóðarinnar. Þá verður sérstaklega hugað að lykilþáttum sem aukið geta samkeppnishæfni landsins." Hvort lýsir eftirfarandi áherslu hægri stjórnar eða vinstri stjórnar?....
Hafsteinn
14. Apríl 2010
...Að mér læðist sá grunur að þingmenn muni taka á vinnufélögum sínum með ofurmjúkum silkihönskum og enginn verði dreginn til ábyrgðar. Ég trúi því nefnilega ekki fyrr en ég tek á því að siðbótin sé komin inn í sali þingsins. Ég hef enn ekki hitt nokkurn mann sem treystir nefndinni fullkomlega fyrir þessu vandasama verki. Í mínum huga kemur aðeins eitt til greina: Við, alþýða þessa lands sem er hinn raunverulegi vinnuveitandi ykkar, á að skipa þann dóm sem mun ráða örlögum þeirra sem brugðust þjóðinni á örlagatímum. Þverskurður þjóðarinnar, fólk úr hinum ýmsu stéttum og úr dreifðum byggðum landsins á að skipa dóminn, ekki þingmenn sem munu aldrei geta ...
Árni Þorsteinsson
14. Apríl 2010
Ég var að hlusta á Alþingi og furðaði mig á því að eini þingmaður Vinstri grænna sem er með, eftir því sem við best vitum, vonda samvisku úr góðærinu var ykkar fyrsti ræðumaður. (Var það ekki hann sem græddi á hlutabréfasölu úr Sparisjóðnum? Lagði hann einhvern tímann einhverja fjármuni inn í sjóðinn? Ég veit um sjálfstæðismenn sem seldu sína hluti á nafnverði, þannig að ef Árni Þór vildi ekki lengur vera með í Sparisjóðnum hefði hann vel getað skilað peningunum. Upphaflega sparisjóðshugsjónin hafði nefnilega lítið með hlutabréfabrask að gera...
Landspítalastarfsmaður
14. Apríl 2010
...Nú er að fylgja málinu eftir. Það er hárrétt hjá Steingrími og Jóhönnu að nú þarf að þétta raðirnar. Ekkert pláss fyrir ketti í ríkisstjórn. Ef þú og andófsliðið í VG getið ekki hagað ykkur einsog fólk, verið fulltrúar okkar sem treystum ykkur til að standa í lappirnar þá eigið þið að víkja fyrir varaþingmönnum ykkar. Þið eigið að segja af ykkur þingmennsku og hverfa til annarra starfa. Svo einfalt er þetta í mínum huga Ögmundur Jónasson...
Sveinn G.
14. Apríl 2010

Gott er ef okkur auðnast að draga lærdóma af mistökum fyrri ára. Hver skyldu vera mestu mistökin? Ég hygg að það sé glámskyggni á samtímann. Gærdagurinn er að verða okkur ljós: Spilling, mistök, vanræksla, óheiðarleiki, valdníðsla og undirlægjuháttur. Kannski er hann verstur. Undirlægjuhátturinn. Hann birtist í því að þora aldrei í valdið en glefsa í þá sem liggja. Ef við ætlum raunverulega að læra af martröð undangenginna ára þá breytum við öllu okkar vinnulagi. Við horfumst í augu við þetta, hver og einn þarf að horfa í eigin barm. Stjórnmálamenn þurfa að breyta vinnulagi sínu. Kerfið þarf að verða opnara og gagnsærra, stjórnmálin lýðræðislegri. Eru þessar ábendingar of almenns eðlis? Eru þetta klisjur? Nei, þetta er...
13. Apríl 2010
Rannsóknanefnd Alþingis vann stórvirki. Það get ég fullyrt eftir að hafa lesið nokkur hundruð blaðsíður af skýrslunni um hrunið. Skýrslunni lýkur 8. október 2008. Margt vatn er runnið til sjávar síðan og margt misjafnt hefur gerst. Samingur við Hollendinga og Breta, Icesave I, II og III, einkavæðing bankanna, uppskipting fyrirtækja, starf sérstaks saksóknara, starfsemi skilanefndanna og nýtt Ísland í stjórnarráðinu. Gætir þú ekki beitt þér fyrir því Ögmundur að ...
Jóna Guðrún
13. Apríl 2010
...Í tilefni góðrar greinar þinnar um græðgina, gagnsæis-skortinn og ekki síst hina auð-smalanlegu, þá datt mér í hug að senda þér þýðingu mína á ljóði eftir hið frábæra tyrkneska skáld (rauðhærður, krullaður, bláeygur af pólskum ættum í bland, og með glettið blik í auga) Nazim Hikmet (1902-1963). Hikmet var sósíalisti, sem þurfti að dúsa í um 15 ár samtals í djeilinu í Tyrklandi...en lét aldrei bugast. Hélt alltaf mannlegri reisn og stolti og trúði á eilífa baráttuna gegn forræðisöflunum. Takk fyrir þína ...
Pétur Örn Björnsson
13. Apríl 2010
Mat ráðamanna í samfélaginu á mismunandi þjóðfélgshópum ruglaðist algerlega í yfirstandandi hruni. Bankamenn og útrásarvíkingar voru eðalmenni en við, almenningur vorum lægra settur þjóðfélagshópur. Við skuldauppgjör núna í bönkunum eftir hrun þá hefur afstaðan lítið breyst. Við, almenningur eigum að taka allan skellinn. Við fáum engar afskriftir af okkar lánum og viðhorfið til okkar er enn lítið breytt. Sett eru flókin lög til að sjá til þess að einungis þeir peningar sem eru tapaðir hvort sem er verða afskrifaðir hjá heimilunum sem höfðu ekki snilld í sér til að ...
Sigurður
13. Apríl 2010
Þarf ekki að gefa kjósendum kost á að gera upp við fortíð sína með kosningum á grundvelli skýrslunnar? Hver er ábyrgð reyndasta ráðherrans í hruninu, sleppur hún líka á tæknilegum forsendum? Er verið að reyna að gera Björvin Sigurðsson að syndaaflausn fyrir Samfylkinguna með því að láta hann stíga til hliðar? Er sekt hans þó minni en annarra ráðherra flokksins. Það er rétt hjá Hreini að ...
Heba
12. Apríl 2010
...Það verður auðvelt fyrir Jón Ásgeir og Pálma í Fons og fleiri, að vísa til þessarar niðurstöðu, í eigin málsvörnum. Þeir voru heldur ekki formlega ábyrgir. Almenningur í landinu hefur mestan áhuga á að vita hverjir voru raunverulega ábyrgir. Hverjir sátu í ráðherranefnd um ríkisfjármál og efnahagsmál? Hverjir ferðuðust um heiminn til að tala máli bankanna? Hverjir sátu einkafundi, trúnaðarfundi og neyðarfundi? Eru þeir einstaklingar ekki ábyrgir?
Hreinn K
12. Apríl 2010
...Í öðru lagi -og það horfir til framtíðar- þá vil ég vara við því að lagasetjarar og reglugerða-sadistar fái nú leyfi -skotleyfi- að fara hamförum í að setja ólar og bönd á allt mögulegt annað í forræðishyggju sinni. Hér á ég við skrifræðis- og forræðis- valdabríma stofnana ríkisins, með blindum Brussel kyrkingi á heilbrigða og frjóa sköpunar og atvinnugleði fólks. Traust býr til traust, svona að öllu jöfnu, í samfélagi okkar mannfólksins...
Pétur Örn Björnsson
12. Apríl 2010
...Hvers vegna ætli allir útrásarvíkingarnir og kúlulánaþegarnir þurfi ekki að fara í gegnum svona síur varðandi afskriftir? Það er bara almenningur sem er settur í gegnum svona síu en bófarnir sleppa og eru hvítþvegnir sýnist manni, ganga lausir og eru í góðum málum bæði hér heima og erlendis, búa í dýrum húsum með dýra bíla í hlaðinu hjá sér.
Sigurður Sigurðsson
12. Apríl 2010

En skýrslan er líka stórvirki sýnist mér, sigur fyrir íslenskt samfélag, staðfesting á að þrátt fyrir allt eigum við sem samfélag fólk sem getur, kann og skilur. Í því gæti framtíð okkar falist, endurreisnin. En þá verðum við hvert og eitt að hugsa okkar gang: Hvað gátum við gert öðru vísi? Aðeins með því að skoða hug okkar með ganrýnum hætti; stjórnmálamenn, embættismenn, ráðherrar, lántakendur, lánveitendur, kjósendur, öll þurfum við að grandskoða hugsun okkar. Við þurfum að koma höndum yfir...
12. Apríl 2010
Þakka þér Ögmundur fyrir að þora að fylgja eigin sannfæringu og ekki síst fyrir að þora að hafa afgerandi afstöðu til m.a. spillingarmála á Íslandi. Það hvíir mikill doði yfir þjóðinni um þessar mundir en þú hefur verið duglegur við að reyna að hrista hugmyndafræðilega upp í okkur. Of margir Íslendingar hafa tekið boði í hlutverk eftir Ibsen þar sem raunveruleikinn er þeim ofviða en nú er kominn tími til að horfast í augu við raunveruleikann og reka leikstjórnendur eins og ...
Þórunn Rakel Gylfadóttir
12. Apríl 2010
Birtist í Fréttablaðinu 11.04.10

...Í öðru lagi tel ég það hafa verið þjóðinni til góðs að spyrna við fótum gegn því ofríki sem við höfum verið beitt í þessu máli. Þar hafa margir lagt hönd á plóginn - allir þeir sem þokað hafa þessu máli áfram stig af stigi, af einni syllu á aðra eiga þakkir skyldar. Þegar upp verður staðið og málið gert upp í sögulegu samhengi munu menn líta á Icesave sem langvinna baráttu - sjálfstæðisbaráttu - þar sem Íslendingum tókst smám saman að reisa sig á fætur og rétta sinn hlut. Hygg ég að innbyrðis karp og fordæmingar manna hver í annars garð muni þá taka á sig allt aðra og mildari mynd en þá sem nú blasir við á umræðuvettvangi dagsins...
12. Apríl 2010
Góðan daginn. Ögmundur ég er svo hjartanlega sammála þér varðandi þessa blessaða skýrslu, sem á að birtast í dag. Og annað hitt, þá finnst mér og einnig fleirum en mér, að ef það er rétt sem fólk heyrir, að ekki verði allt birt í þessari marg umtöluðu skýrslu í dag heldur árið 2090, til hvers var þá farið af stað með hana? Ég tel að við sem ...
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
12. Apríl 2010
Ibsen leikrit, nei, hér er ekkert þvilíkt á ferðinni, heldur skipulögð glæpastarfsemi, sem hefur alla tíð, frá lýðveldisstofnun, viðgengist og er enn. Hvergi er hreinsð til í opinberu klíkukerfi, samt vita allir, Ögmundur, að stöðuveitingar og annað í þessu klíkukerfi, hafa alla tíð, gengið sölum og kaupum, í gegnum pólitískt litróf manna. Hvað hafið þið gert til að laga til? Ekkert , akkúrat ekkert. Vinstri....
Friðjón Steinarsson
12. Apríl 2010
...Við, fjölskyldurnar í landinu þurfum dag eftir dag, núna nær tveimur árum eftir hrunið, að horfa uppá allskonar gróðapúnga og gæðinga, kúlulánaþega og allskyns vitleysinga vaða í peningum almennings og stinga af með þetta í einu eða öðru formi. Þetta fólk, þessir glæpamenn (og sundum konur) fær endalausar afskriftir meðan almenningur er algerlega undir hælnum á innheimtumönnum. Þar er sko ekki verið aðafskrifa. Hvað finnst þér um þetta? Hvers vegna hefur núerandi stjórn ekki sett þetta í forgang að ná utanum þetta hrun og taka á þessum vitleysingum?
Sigurður Sigurðsson
11. Apríl 2010

Á morgun verður birt skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis. Lögreglan segist verða í viðbragðsstöðu, biskup þjóðkirkjunnar hefur sent prestum og djáknum bréf þar sem hann hvetur til þess að söfnuðir kaupi eintak af skýrslunni og láti liggja frammi í safnaðarheimilum. Þar geti fólk síðan beðist fyrir. Fjölmiðlarnir segjast hafa verið að undirbúa sig vikum saman, fréttamenn eru hvattir til að verða vel sofnir, leikarar munu stíga á svið í maraþon lestri þar sem hvert orð skýrslunnar verður lesið á fimm sólarhringum. Á Alþingi streyma út upplýsingar um tímasetningar, hvenær - uppá sekúndubrot - skýrslan verði birt, hvenær vefurinn opnaður og hvenær plöggin verði komin á borð þingmanna. Þeir segjast sumir hverjir hafa af því þungar áhyggjur að ...
10. Apríl 2010
...Ég vil þakka fyrir sérstaklega góða grein Björns Jónassonar bróður þíns á vefsíðunni, hún hittir beint í mark á fjölda sviðum og ætti að vera öllum sem hafa áhuga á þjóðmálum að lesa vel og vandlega. Hún ræðir um heilmikið grundvallarmál í stuttri grein. Ég er einnig sammála flestu í lesendabréfadálknum undanfarið! Flestir eru nú búnir að gera sér óþjóðlegt undirferli Samfylkingarinnar ljóst, enda fer ekki á milli mála. Einnig er eitt gegnsætt í stjórnmálum vorum, þó flest sé dulið, að...
Helgi
10. Apríl 2010
... Mig langar til að spyrja: Er verið að innleiða ritskoðun í landinu í skjóli skuggalegra niðurstöðu hrunskýrslunnar? Hvar er Davíð Oddsson niðurkominn núna? Er hann virkilega flúinn úr landi? Á dögunum birtist á vefmiðlinum visir.is frétt um að Davíð Oddsson væri flúinn úr sprungunum við Rauðavatn og meira að segja alla leið úr landi. Ekkert var minnst á þessa stórfrétt í Morgunblaðinu en ekki leið á löngu að fréttin á visir.is var tekin ofan án nokkurra skýringa. Mér tókst nú samt að berja þessa smán augum og var fljótur að blogga eins og sjá má hér...
Guðjón Jensson
10. Apríl 2010
Um daginn bað ég ákveðinn þingmann um að stela fyrir mig Kjarvalsmálverki úr þinghúsinu. Slíkt gæti ég fénýtt strax, eða notað til heimilsskrauts hjá mér. Raunar dró ég beiðnina til baka eftir umhugsun því æra mín, þjófsnautsins, gæti bilað og æra þingmannsins líka, ef upp kæmist um brallið.Við megum víst ekki umgangast almannaeigur á þann hátt. Ég fékk þó betri hugmynd: Fégræðgi mín hefur leitt mig til vonar um að einhver afhenti mér að gjöf skrauthýsi á besta stað í borginni. Ég tími ekki að kosta smíðina sjálfur, en hún kostar á bilinu 12-14 milljarða segja mínir menn, sem auðvitað ætla sér sinn skerf af smíðakostnaði. Ég hef nú þegar ráðið kynningarstjóra...
10. Apríl 2010
Ég varð all undrandi þegar ég heyrði, sá og las í fréttum að forsætisráðherra og fjármálaráðherra væru að snupra skilanefnd gamla Glitnis fyrir að stefna pörupiltum fyrir rétt vegna horfinna milljarða úr sjóðum bankans. Þau eru bæði steinhissa, og virtust af einhverjum ástæðum skömmustuleg að svona geti hafa gerst, trúa því varla á „strákana sína" (broskarl). Eftir ríkisstjórnarfund skal sérstaklega átalið og þar með málið gert hápólitískt, að ...
Kristján Auðunsson
10. Apríl 2010
Í vikunni komu fréttir um það að hagnaður Landsbankans hefði verðum rúmir 14 milljarðar á síðasta ári. Hrollur fór um mig þegar ég las þetta því tölurnar minna svo svakalega mikið á tölur bankanna frá því að "bankaveislan" mikla stóð sem hæst. Hverjar eru skýringarnar á þessum mikla hagnaði, sem nægði t.d. til að halda uppi fullri þjónustu í heilbrigðiskerfinu frá því sem nú er fyrirhugað og vel það? Er þetta raunverulegur gróði? Ef svo er þá hlýtur ...
Jón Torfason
9. Apríl 2010

...Rauði þráðurinn í grein Björns er sá að mál málanna í samtímanum sé lýðræðið, með hvaða hætti ákvarðanir eru teknar í samfélaginu, hvernig sameiginlegir fjármunir okkar eru nýttir, til dæmis í lífeyrissjóðunum, samspil lýðræðis, forréttindavörslu, valdahagsmuna, markaðar og sérfræðistjórnmála... Eflauast líkar ekki öllum allt sem sagt er. Til dæmis hef ég trú á því að Sjálfstæðisflokkurinn skrifi ekki upp á eftirfarandi einkunnagjöf: „Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig verið ófeiminn við að líta á ríkið sem einkaeign sína og telur sig hafa stundað spillingu í "fullum rétti", enda löglega kjörinn til áhrifa..."
8. Apríl 2010
Hálfsannleikurinn, konungurinn í ríki lyginnar hefur nú gert víðreist innan ríkisstjórnarinnar. Við lesum úr ræðum ráðamanna hugmyndafræði sem er svo illa framsett að maður veltir fyrir sér hvort metnaður viðkomandi til friðar og sannleiks sé endanlega fyrir borð borinn. Nú er það nýjasta að við þurftum að leika stórleik ofar öllum ELO stigum til að tryggja okkur stuðning AGS til að endurskoðun efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar gæti farið fram. Það tókst með því að leggjast ofan á hvert stórveldið af öðru og ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
8. Apríl 2010
...Ósköp gengur hægt að gera ársreikninga Landsvirkjunar aðgengilega fyrir venjulegt fólk. Í hiutteðfyrra var reksturinn í járnum, í fyrra drógust tekjur mikið saman m.a. vegna lækkunar á álverði. Samt er hagnaður af rekstri fyrirtækisins hvernig sem það má nú vera. Svo virðist sem eitthvað bókhaldsfiff með einhverjar afleiður „bjargi" fyrirtækinu frá glötun í boði $jálfstæðisflokksins. Ekkert bólar á sundurliðun á uppruna tekna fyrirtækisins þrátt fyrir óskir í áraraðir þar um, annars vegar ...
Guðjón Jensson
8. Apríl 2010
Birtist í Fréttablaðinu 07.04.10.

Hluti af stofnanaveldinu íslenska - sá hinn sami og vildi ljúka Icesave samningunum sem fyrst í sumar - leggur sig nú í líma við að sýna fram á að frestun samninganna hafi valdið okkur ómældu tjóni. Reyndar ekki alveg ómældu - í eiginlegri merkingu - því sumir hafa reiknað meint tjón af nokkurri nákvæmni. Hér eru á ferðinni auk Fréttablaðsins, fræðimenn, núverandi og fyrrverandi við Háskóla Íslands, hagdeild ASÍ, nokkrir starfsmenn Seðlabankans og stjórnmálamenn, núverandi og fyrrverandi. Þessir aðilar eiga það flestir sammerkt að vitna óspart hver í annan og gera þannig fullyrðingu eins að eigin rökstuðningi, án þess þó að fullyrðingin hafi verið annað en getgátur einar....
7. Apríl 2010
Í stórgóðri grein sem birtist hér á vefsvæðinu fjallar Björn Jónasson um þá fortíð sem við nálgumst hröðum skrefum. Það er vond framtíð. Í grein sinni fjallar Björn meðal annars um "hina faglegu" og segir þetta: "Þessa stétt mynda hinir efnameiri í samfélaginu, ásamt embættismönnum og stjórnmálamönnum, sem sagt þeir sem hafa lifibrauð af því að halda óbreyttu ástandi." Hér vantar einn hóp, stéttina sem sér um vitundariðnaðinn, fréttamennina...Hér er lítið dæmi. Heilbrigðisráðherra tilkynnir að hún hyggist veita embættismanni áminningu. Af spinnst nokkur umræða uns ...
Ólína
7. Apríl 2010
...Því miður vinnur meginþorri stjórnmálamanna á þennan hátt og virðist engin breyting vera að gerast í heiðarlegum vinnubrögðum innan Alþingis. Samfylkingin vill bara losna við Jón Bjarnason úr ríkisstjórn þar sem hann er megn andstæðingur þess að Ísland eigi í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Samfylking mun ekki breytast og er ...
Ágúst Valves Jóhannesson
4. Apríl 2010

...Á slíkum stundum er oft boðið upp á gamalt eðalefni. Af því er mikið til í kistum Ríkisútvarpsins. Sannkallaðir menningarfjársjóðir. En það er ekki nóg að búa yfir vönduðu efni frá fyrri tíð. Framleiðsla á gæðaefni þarf að vera stöðug. Ríkisútvarpið þarf stöðugt að veita menningu samtímans út til þjóðarinnar. Svo er það hitt, að ef dagskrárgerðin gengi út á það eitt að finna gott en gamalt þá er hætt við stöðnun; að áhöfnin á fleyinu hætti að geta fundið ný mið. Í menningarútvarpi sem rís undir nafni rennur fortíð og samtíð saman í eitt. En það þarf þekkingu og góða dómgreind til að flétta saman gamalt og nýtt svo vel sé; spinna úr því nýjan þráð. Það kann Gunnar Stefánsson...
4. Apríl 2010
Ég sá þú skrifaðir um ummæli Magnúsar Orra alþingismanns um að þeir sem vildu ekki semja um Icesave bæru ábyrgð á að 3.300 einstaklingar yrðu atvinnulausir. Þessi tala kemur að sjálfsögðu úr sömu smiðju og milljarðarnir 75 sem þú nefndir í pistli um daginn. Samlíkingin er sláandi. Tveim valkostum er stillt upp. Í öðrum er samið um Icesave og þá fellur allt í ljúfa löð. Í hinum er ekki samið um Icesave og þá erum við föst í úlfakreppu. Magnús Orri vitnar í ...
Árni V.
4. Apríl 2010
...Hvatning hennar minnir skemmtilega á óþreyju byltingarskáldsins mikla Majakovskís, þegar honum fannst allt vera að kafna í innantómu skrifræði og sérhagsmunagæslu allra hinna stein-gerðu í björgum nómenklatúrunnar í Kreml. Sem einn fulltrúi margra nóboddía í öskustó hrunsins, þá vil ég þakka þér heiðarlega baráttu, því í og með vegna hennar getur maður þó amk. enn haldið mannlegri reisn sinni og stolti - þrátt fyrir allt. Að lokum langar mig til að minnast á það, að mér finnst grein Björns Jónassonar, hér á síðunni, afskaplega athyglisverð, fróðleg og upplýsandi.
Pétur Örn Björnsson
4. Apríl 2010

...Í ofanálag bauð náttúran upp á eldgos á Fimmvörðuhálsi - vonandi fólki og dýrum að skaðlausu. Áhugi landsmanna á gosinu er ótvíræður. Hann ber ekki aðeins vott áhuga á náttúruundrum heldur líka á landinu okkar. Þúsundir hafa farið að sjá gosið - nokkuð sem ekki er með öllu hættulaust í nálægð. Á sveimi eru hjálparsveitirnar. Þær gefa okkur öryggistilfinningu og hlýjar hugrenningar.
Ég óska öllum lesendum síðunnar gleðilegra páska.
1. Apríl 2010
Fyrir rúmum hundrað árum síðan hófst sigurganga lýðræðis á Íslandi. Völdin voru hægt og bítandi færð í hendur almennings og fulltrúa þeirra. Engum blandaðist hugur um að þróunin yrði síðan á einn veg, í átt til enn aukins lýðræðis og að lokum yrði þjóðin beint og milliliðalaust allsráðandi um öll mál sem hana skipta nokkru. En menn gáðu ekki að því að stéttirnar hafa ekki sömu hagsmuni. Yfirstétt sú sem myndaðist þegar fulltrúalýðræðið var tekið upp, hefur verið treg til að láta völd sín af hendi. Þessa stétt mynda hinir efnameiri í samfélaginu, ásamt embættismönnum og stjórnmálamönnum, sem sagt þeir sem hafa lifibrauð af því að halda óbreyttu ástandi.
Til að tryggja enn frekar völd sín og áhrif hefur yfirstéttin tekið til þess ráðs að snúa tannhjóli tímans til baka og freista þess að minnka völd og áhrif almennings. Aðaluppspretta hugmyndafræðinnar sem sótt er í til að skýra út nauðsyn minnkandi lýðræðis eru annars vegar frjálshyggjan og hins vegar svonefnd meritókrasía. Rökfærsla frjálshyggjunnar felst...
1. Apríl 2010
...Ljótir stimplar eru oft notaðir af þeim sem einskis svífast, gegn góðu fólki sem berst gegn kúgun og óréttlæti. Það er ekkert nýtt, heldur gömul og margnotuð tækni illvígra manna. Andófsmenn gegn kúgun, eins og Icesave-andstæðingar, eru oft kallaðir brjálaðir, eða vitskertir vitleysingar og öfgamenn. Eða enn verri ónefnum. Ögmundur, haltu þinu striki og stattu fast gegn óréttlæti. Fastar Ögmundur. Sorglega er óvíst hvort Ögmundur geti það, -hvort hann hafi nægan ...
Elle.
31. Mars 2010
Birtist í Fréttablaðinu 30.03.10.

Atvinnuleysi er böl. Ég tek það því alvarlega þegar mér er borið á brýn að hafa stuðlað að auknu atvinnuleysi. Einmitt það gerir Magnús Orri Schram alþingismaður í skrifum sínum í Fréttablaðinu nýlega. Við sem stuðluðum að því að Icesave-samningarnir fóru inn í nýtt ferli, erum sögð hafa með frestun málalykta, valdið gríðarlegum kostnaði sem smám saman sé að koma í ljós: "Lægri laun, hærri vextir, miklu meiri niðurskurður, lægra gengi og a.m.k. 3.300 atvinnulausir er bara ein birtingarmynd þessa kostnaðar." Þetta fullyrðir Magnús Orri...
30. Mars 2010
...Reyndur jafnaðarmaður með 32 ára þingreynslu sem hefur helgað krafta sína baráttu fyrir lýðræðislegum leikreglum gerir ekki meðvitað stjórnunarstíl Halldórs Ásgrímssonar að sínum. Ekki nema náttúrulega eitthvað hafi komið fyrir viðkomandi. Önnur staðfesting á því að forsætisráðherra skrifaði ekki Tomma og Jenna ræðu sína sjálf er hugmyndin um að leggja niður 80 ríkisstofnanir. Þær hugmyndir eru jafn merkingalausar og að þykjast vera að byggja upp norrænt velferðarkerfi í miðju hruninu. Norrænt velferðarkerfi sem byggist á bótaskerðingu, skerðingu velferðarþjónustu og aumingjagæsku gagnvart auðmönnum! Hvaða stofnanir er ráðherra að tala um? Hvaða 2000 ríkisstarfsmenn eru það sem sitja daginn inn og út og naga blýanta? Ef ekki væri fyrir aumingjaskapinn væru bæði BSRB og BHM samtökin búin að ...
Hafsteinn
30. Mars 2010
Erlendur bankamaður sagði eitt sinn um bólur að hraðinn dræpi engan heldur yrðu menn fyrir skaða sem stöðvuðu mjög snögglega. Viðskiptaráðherra virðist hrifinn af svona hundalógík því í ræðu sem hann hélt nýlega í Háskólanum kom hann með eigin útgáfu sem hljóðar nokkurn veginn þannig að vandi Íslendinga í dag sé ekki tilkominn "vegna hrunsins heldur vegna bólunnar (sem orskakaði hrunið)". Þessi orð ráðherrans eru mjög upplýsandi fyrir umræðuna sem ...
Árni V.
29. Mars 2010
Ég fagna því að komin sé af stað umræða á afskriftum skulda hjá almenningi, þ.e.lækkun höfuðstóls lána í það sem þau voru fyrir hrun. Mér finnst hins vanta umræðu um lán sem fólk er með hjá lífeyrissjóðum. Ég er viss um að þar sé svigrúm fyrir LEIÐRÉTTINGU á lánum. Eitt lítið dæmi: við hjónin tókum framkvæmda lán sem átti að vera til skamms tíma fyrir framkvæmdum við húsbyggingu þar til við mundum selja fasteignina okkar. Lánið var 21,7 milj upphaflega tekið í okt ´08. í dag erum við búin að borga 1,7 milj og höfuðstóllinn stendur í 24,8. Eignin okkar hefur ...
Valgerður
28. Mars 2010
...Skammt er síðan íslensk braskaragengi og taglhnýtingar þeirra í pólitík, töldu afar arðvænlegan kost að kaupa upp orkulindir og orkufyrirtæki fólks í Filipseyjum! Þar var ríkisstjórn í fjárhagsvanda og þann vanda ætluðu íslenskir úlfar að notfæra sér. Óskaplega margar skriljónir átti að græða á Filipseyjum og var aðgerðin hugsuð í samfloti með alþjóðlegri hjörð hrægamma. Nú rennur fossinn uppímót. Ísland er hugsað sem veislukostur hrægamma. Nú skal selja þeim orkulindir þjóðar fyrir tombóluprís, Árni og íhaldsvinir eru meðal áköfustu sölumanna. Salan er á gráu lagasvæði til skúffufyrirtækis alþjóðfjárfesta, Magma. ...NATO hefur fengið nýtt hlutverk, nýjan orustuvöll...
28. Mars 2010
Eins og þú veist þá vill Landsvirkjun eyðileggja Þjórsá með virkjunum og hefur rétt okkur sveitamönnunum sleikibrjóstsykur að ekki eigi að selja orkuna til álvera. En það er annað sem er að ergja mig og ég spyr hver á Landsvirkjun? Ég hélt að við þjóðin ættum fyrirtækið eða svo hefur mér verið sagt. Nú er það svo að ekki er búið að sammþykkja að reisa þessar virkjanir en stjórn Landsvirkjunar er greinilega búin að ákveða það. Stjórn Landsvirkjunar er að byggja fjós og íbúðarhús að bænum Akbraut í Rangárvallasýslu og einnig er hún að ...
Viðar Magnússon
27. Mars 2010
...Spurningarnar sem fjölmiðlar, t.d. Morgunblaðið, ætti að leita svara við nú eru meðal annars þessar þessar: Var það í tíð Vilhjálms Egilssonar, stöðugleikamanni og þáverandi framkvæmdastjóra Verslunarráðs og formanns efnahags- og viðskiptanefndar sem þessar reglur urðu til? Var þetta gert að kröfu Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins? Studdi ASÍ lagabreytingar sem fæddu af sér þessar ruglreglur? Það þarf að setja heimilisfang á hrunið og ábyrgðina. Með nákvæmni gæti verið að þeir sem mest sjást og heyrast í fjölmiðlum nú óskuðu sér framtíðar, án þess að þurfa að burðast með fortíðina. Það er kannske það sem...
Ólína
27. Mars 2010

...Spyrja þarf hvort ekki sé heppilegra að ná fram yfirlýstum markmiðum með Endurhæfingarsjóði á hagkvæmari og réttlátari hátt með því að styrkja það sem fyrir er,með því að setja meiri peninga í Grensás og Reykjalund og aðrar stofnanir sem sinna endurhæfingu. Sjúkra- og styrktarsjóðir verkalýðsfélaganna hafi síðan það hlutverk að styðja við bakið á einstaklingunum og veita kerfinu aðhald.
Þeir eiga ekki að verða kerfið. Baráttan um velferðina má ekki hafna í farvegi eiginhagsmuna.
Árni Páll Árnason, félagsmálaráherra hefur lýst yfir áhyggjum yfir því að verið sé að koma á tvöföldu kerfi. Hann er ekki einn á báti.
Ég hygg að hann fari hér fyrir meirihlutavilja í þjóðfélaginu.
27. Mars 2010
...Fiskurinn er auðlind sem á ekki að verða vandamál févana þjóðar heldur happ sem nýta ber af skynsemi. Og það ógnar allri dómgreind að stöðugleikasáttmáli svonefndur sé hafður að hótunarefni ef það verður ekki viðurkennt að fyrir meðafla grásleppukarla á Norðurlandi skuli greiða okurleigu til sunnlenskra útgerðarfyrirtækja. Íslenska þjóðin krefst þess að umboðsmenn hennar vinni verk sín eins og fullorðið fólk. Nú er í höndum löggjafans að nýta undanhald LÍÚ til að ganga af djörfung til móts við vilja meirihluta þjóðarinnar í því að ...
Árni Gunnarsson
27. Mars 2010
...Í þessu tilliti eru þeir Svavar vopnabræður og samherjar því ef marka má þeirra eigin orð og framsetningu stendur það upp úr í þessu máli að þeir mega ekkert aumt sjá. Í því ljósi er það skemmtilegt að Indriði væni aðra um heimsfrelsunaráráttu. Þeir eru þeir einu sem ég man eftir sem hafa lýst því yfir að þeirra markmið í málinu sé að verja hagsmuni þeirra sem minna mega sín. Nú vil ég ekki gera lítið úr slílum ásetningi. Heimurinn væri eflaust betri staður ef allir hugsuðu eins og þeir...
Árni V.
25. Mars 2010
Þakka þér fyrir að taka áfengisauglýsingar til umræðu á Alþingi. Einhverjum kann að finnast þú skjóta föstum skotum að Ríkisútvarpinu, mér finnst eins og þú gefir á þá lausan bolta, en af hverju segi ég það? Ég segi það vegna þess að að vinsælir þættir; dæmi - danski þátturinn Klovn - er kostaður af Tuborg fyrirtækinu, eða af þeim sem selja Tuborginn hér á landi. Það er umdeilanlegt að public-service fyrirtæki eins og Ríkisútvarpið skuli láta kostunarmöguleika (vilja fyrirtækja til að borga dagsskrárliði) ráða útsendingu sinni og það er óþolandi að svona fyrirtæki skuli gera út á áfengisdrykkju, ungra sem aldinna. En þetta er ekki það eina. Allur íþróttaheimurinn leggur ...
Hafsteinn
25. Mars 2010

Árni Guðmundsson, háskólakennari og fyrrum æskulýðsfrömuður í Hafnarfirði, kom með ágæta ábendingu á heimasíðu sinni eftir að ég talaði fyrir frumvarpi mínu og Þuríðar Backmans um áfengisauglýsingar. Hann benti á að RÚV hefði slegið því upp að ég vildi banna áfengisauglýsingar þegar veruleikinn væri sá að þær væru bannaðar .... Í Ríkisútvarpinu er áfengissauglýsingabannið virt að vettugi nær daglega. Líka í Kastljósinu. Það er svolítið kindugt því Kastljósið hefur áður sýnt að það vill vera sérlega sómakært þegar áfengi er annars vegar. Um það gat ég sérstaklega í framsöguræðu minni og beindi þeirri spurningu til útvarpsstjóra hvar sómakenndin væri nú. Hvort ekki væri ráð að sýna hana í verki og framfylgja lögum sem kveða á um að áhorfendum sé hlíft við áreitni...
24. Mars 2010
...En þá kemur Indriði með útúrsnúningsgrein um hversu vinstri menn sem börðust á móti upphaflegum Icesave samningum eru vitlausir að halda fram sjónarmiðunum "berjast á móti heimskapítalismanum". 2. Hvað er embættismaður eins og Indriði sem hefur verið lofsamaður fyrir margt og er nokkuð vel liðinn að setja fram grein sem er jafn illa skrifuð og ómálefnaleg eins og þessi grein er. Fyrir mér var þetta bein og fremur illskeytt árás á það vinstri sinnaða fólk sem var á móti upphaflegu Icesave samningunum.
Ágúst Valves Jóhannesson
23. Mars 2010

Indriði H. Þorláksson, sem komið hefur að Icesave samningaviðræðunum, hefur nú hafið ritun greinaflokks á
Smugunni (smugan.is) þar sem hann reifar sjónarmið sín. Fyrsta greinin hefur þegar birst og er hún harðorð í garð þeirra sem gagnrýnt hafa samningsferlið og fá þeir ofanígjöf af hans hálfu; taldir vera haldnir minnimáttarkennd, þjóðernishroka, heimsfrelsunaráráttu, kveinstöfum og vesældarþráhyggju svo eitthvað sé nefnt. Eins og þessi listi ber með sér er að finna í einkunnarbók Indriða H Þorlákssonar mergjuð hugtök og í sumum tilvikum skemmtileg nýyrði. Við því er ekkert að segja að ...
23. Mars 2010
...Sem áhugamanneskju um samfélagsmál þykir mér verst að talskona Samtaka ferðþjónustunnar skuli hafa látið hjá líða að beita sér í málinu, eins og hún gerir jafnan þegar deilur eru uppi sem sannanlega skaða ferðaþjónustuna. Hún á að gæta hagsmuna þjónustufyrirtækja í ferðaþjónustunni og hefði átt að gagnrýna Icelandair flugfélagið fyrir að stofna fyrirtækjunum í voða með því að neita að semja við flugvirkjana. Til allrar hamingju er samhljómurinn milli Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðsins að ekki þarf að ...
Jóna Guðrún
23. Mars 2010
Ég verð að segja eins og er að fólki er frjálst að hafa skoðanir, en þær verða þá að vera sanngjarnar og fólk fái að tjá sig á báða bóga um viðkomandi mál og málefni. Ég get ekki haft þá skoðun sannfæringar minnar vegna að það kallist sanngjart að setja lög á verkföll. Þegar launafólk hefur verið í kjarabaráttu nota stjórnvöld og fulltrúar atvinnurekenda alltaf rök fyrir því að það sé ekki heppilegt að fara í vekföll núna...
Þórir Karl Jónasson
22. Mars 2010
...Gleði og eftirvænting okkar um að börn framtíðar muni bein í baki, kát og frísk, geta staðið við minjagripasölu á áningastöðum fyrir túrista, seljandi þeim fögur póstkort skartandi grösugum grundum þar sem bæði bú og fiðurfé þrífst með ágætum, seður ekki hungur atvinnuþurfandi einstaklinga þessa samfélags.
Óskar K. Guðmundsson,
fisksali
21. Mars 2010
...Hverjir settu sig jafnan upp á móti hertu skattaeftirliti? Sjálfstæðismenn.
Hverjir bjuggu til regluverkið í viðskiptalífinu? Sjálfstæðismenn.
Hverjir stjórnuðu sölu bankanna? Sjálfstæðismenn.
Hver flutti magnaða ræðu um skattamál hjá lögfræðingum og endurskoðendum 2004? Davíð Oddsson.
Hverjir ráða Samtökum atvinnulífsins? Sjálfstæðismenn.
Hverjir ráða Viðskiptaráði? ....
Hafsteinn
21. Mars 2010
Ég vil benda þingmanninum á að hann er stuðningsmaður ríkisstjórnar allra landsmanna,samt gerir hann allt sem hann getur til að fella stjórnina ásamt nokkrum félögum sínum.Við viljum samhenta stjórn, við viljum að stjórnarflokkar standi saman að þeim málum sem þarf að gera og séu ekki sífellt að mótmæla öllu og öllum nema stjórnarandstöðunni. Mótmælendurnir í vinstri grænum eru ekkert nema ...
Anna J. Óskarsdóttir
21. Mars 2010
...Þið rekið sjúkraliðana úr starfi með niðurskurði og setjið fjármagn í vegagerð fyrir kallana. Rosalega kynjað! Álfheiður sem þið hafið gert að heilbrigðisráðherra ætlar að fá siðfræðinga til að réttlæta þetta ranglæti! Þetta sagði hún í sjónvarpsviðtali. Er þetta stefna VG? Ég kaus VG en ekki þetta. Ekki þessa afstöðu. Ég kaus allt annan flokk en þann sem nú er við völd. Þetta er ekki mitt VG! ...
Guðrún Sveinsdóttir
21. Mars 2010
Það er heilmikið verk að frelsa heiminn og engri einni ríkisstjórn ætlandi svona ofan á margþætt annríki á stóru heimili. Aftur á móti gæti heilmikið unnist fyrir okkar litlu þjóð ef fólkinu væri gefið góðfúslegt leyfi til að bjarga sér sjálft á eigin forsendum og eftir þeim leiðum sem hugur hvers og eins stendur til. Hvernig væri nú Ögmundur að taka þessi orð mín alvarlega og hugsa þau svona í smástund? Það er nefnilega komið svo hér á okkar ágæta Íslandi að þjóðin er komin í ...
Árni Gunnarsson
20. Mars 2010
Vona að það sé ekki í andstöðu við lífsskoðanir þínar að ætla hugsanlega að ganga til liðs við ríkisstjórnina sem knúði í gegn umsóknaraðild að ESB. Andstaða nokkurra VG þingmanna hefur einskis mátt sín þar að lútandi. Hvað hefur breyst í grundvallaratriðum í Icesave sem getur réttlætt aðkomu þína að þessarri hörmung ...
Óskar K Guðmundsson,
fisksali
20. Mars 2010
Ég, persónulega, er alveg orðlaus yfir, að þegar að minnsta ríkið í samfélagi þjóða, varð gjaldþrota, með þvílíkum afleiðingum, að skrifaðar verða í sögu mannkyns, þá situr við völd vinstri stjórn, sem gerði ekki betur en að einkavæða alla banka aftur. Hvað hefur 300 þúsund manna samfélag með einkabanka að gera? Ekkert, akkúrat ekki neitt. Sama má í raun segja um 300 milljóna manna þjóðfélag. Bankar eru til...
Friðjón Steinarsson,
Danmörku.
19. Mars 2010
Athyglisverð umræða um útreikninga "hagfræðingsins" Gunnlaugs K Jónssonar. Menn virðast ekki þurfa að vera ábyrgir orða sinna lengur. Hver bullar um annan þveran. Eru menn búnir að gleyma yfirlýsingum ...Með því að auka sjálfstæði Seðlabanka og færa hann undan lýðræðislegu eftirliti og ákvörðunarvaldi og ráða "sérfræðinga" til að taka lykilákvarðanir um örlög þjóðarinnar, erum við, fólkið í landinu, í raun að afsala okkur völdum yfir okkar eigin örlögum. Dogmað á bakvið sjálfstæði Seðlabankans kemur úr fórum Washington Consensus sem er...
Hreinn K
19. Mars 2010
...Umboð til að semja við fyrirtæki hvers starfsemi kann að vera andstæð hagsmunum friðsamrar vopnlausar þjóð er ekki fyrir hendi! Hér er stórmál á ferðinni og augljóst að peningapúkarnir eru að koma úr skotum sínum og ætla sér stóra hluti með þessum ísmeygilega fagurgala um betri tíð. Af ávöxtunum skulum við þekkja þá!
Guðjón Jensson,
Mosfellsbæ
19. Mars 2010

...Htt er svo annað mál að íslenska peningakerfið hrundi með hrikalegum afleiðingum fyrir efnahagslífið í heild sinni. Mikilvægt er að menn sjái orsakasamhengið í réttu ljósi. Ég skal játa að fræðimenn við háskólana og pennaliprir talnaspekúlantar hafa stundum sett fram staðhæfingar um þetta málefni sem ég hef átt erfitt með að átta mig á. Ekki hef ég orðið var við mikla sjálfsgagnrýni á þessum bæjum og ekki séð andæft staðhæfingum um að frestun á Icesave hafi leitt til taps upp á 75 milljarða á mánuði hverjum - 900 milljarða á ári! - einsog einn hagspekingur hefur haldið fram...
17. Mars 2010
...Skuldaklukkan sem ungir jafnaðarmenn hafa sett upp á vefnum politik.is gefur það í skyn þar sem þessi kostnaður er talinn frá einni sekúndu til annarrar og tapið hrúgast yfir þjóðina með ógnarhraða. Túlkunin er sú að skuldbindingin vegna Icesave er smámál miðað við tapið sem af því hlýst að hafa það hangandi yfir sér. Nú má spyrja sig hvernig þetta geti verið? Útreikningurinn byggir á þeirri forsendu að íslenskt hagkerfi vaxi að jafnaði um 3%. Þá er gefin sú forsenda að ...Sé samskonar útreikningi beitt og svipaðar ályktanir dregnar má segja að launþeginn tapi að lágmarki 200 þúsund krónum á mánuði af því að sleppa 10 þúsund króna launahækkun eitt árið. Sú fjárhæð miðar við 8% ávöxtunarkröfu. Ef miðað er við...
...
Frosti
17. Mars 2010
Ég hvet VG til að beita sér fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um listamannalaun. Alltaf þegar listamannalaunum er úthlutað kemur upp ágreiningur sem klýfur þjóðina í 2 fylkingar eins og skoðanakannanir sýna. Það er mikilvægt að þjóðin fái að segja skoðun sína í þessu máli á lýðræðislegan hátt...
Pétur
16. Mars 2010

Þjóðverjar hyggjast banna bónus greiðslur í bönkum og setja hámark á launagreiðslur í bönkum. Sarkozy Frakklandsforseti hefur látið banna bónusgreiðslur í bönkum sem hafa þurft á aðstoð ríkisins að halda. Meira að segja breskir íhaldsmenn hafa gagnrýnt hugmyndina um bónusgreiðslur í bönkum. Sumir telja að bónusgreiðslur séu grundvöllur spillingar í bankastarfsemi. Sannast sagna ætlaði ég ekki að trúa mínum eigin augum þegar fréttir bárust af því að -bankarnir væru í þann veginn að koma á að nýju
„bónuskerfi" innan sinna múra. Í gær ...
16. Mars 2010
Ekki ætla ég að ræða innihald skýrslunnar enda eru prófarkalesarar stjórnmálaflokkanna að fara yfir lokaeintakið. Við þurfum því ekki að hafa neinar áhyggjur af efninu. Annað er að plaga mig - annars vegar þyngd skýrslunnar og hins vegar ýmsir umhverfisþættir tengdir útgáfunni. Fyrst þyngdin...
Þjóðólfur
14. Mars 2010
Mér skildist á forystumönnum ríkisstjórnarinnar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um daginn að nú þyrfti að þétta raðirnar. Talað var um sættir innan VG. Talað var um uppstokkun í ráðherraliðinu. Góðar fréttir út af fyrir sig. Það vantaði hins vegar alveg að tala um stefnu ríkisstjórnarinnar og hvort hún hefði ekki siglt af leið - gleymt kosningastefnuskrám flokkanna og málefnasamningnum. Og viku eftir þjóðaratkvæðið er engu líkara en drepa eigi uppstokkun innan ríkisstjórnarinnar á dreif. Formaður VG talar í gátum í stað þess að drífa í því að koma...
Helga Þorsteinsdóttir
12. Mars 2010
Vel til fundið að hafa fánana undir myndunum af utanríkisráðherrunum og lögmanni Færeyinga til að minna á þau samfélög sem þeir eru sprottnir upp úr. Hugsaði að fánarnir eru áþekkir, sömu litir og eins lagaðir. Nær væri að horfa til samstarfs á Norð-urslóðum í stað þess að lárt Evrópusambandið gleypa okkur.
Jóel A.
12. Mars 2010

...Gagnrýni forseta Íslands, nú síðast í garð Norðurlandanna, hefur hreyft við valdakerfinu á jákvæðan hátt og yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, nú síðustu dagana hafa verið úr munni manns sem stendur uppréttur...Það er svo okkar norðurslóðakarla og kvenna að velta því fyrir okkur af hverju það eru einmitt þjóðirnar í Færeyjum og Noregi sem standa með okkur og láta sig framtíð okkar varða. Fjárhagsstuðningur er vissulega mikilsverður en ekki er hin almenna velvild síðri. Hjálparhönd verður ekki metin til fjár þegar menn eru aðþrengdir og í nauðvörn. Höfum það...
11. Mars 2010
Eru það ekki tómir draumórar og jafnvel barnaskapur að halda að hægt sé að ná einhverri sameiginlegri niðurstöðu allra flokka um Icesave? Er það ekki löngu ljóst að formenn stjórnarandstöðuflokkanna, og þá sérstaklega Framsóknarflokksins, þrífast á illdeilum og vilja draga deiluna sem allra mest á langinn í því skyni að auka líkurnar á því að þeir komist aftur til valda? Eru orð þín og gjörðir ekki einmitt vatn á myllu þeirra?
Svala Jónsdóttir
11. Mars 2010

Viðtal á smugan.is 10.03.10.
....Harðlínuafstaða og flokkspólitískir hagsmunir eru ekki lausnamiðaður kokteill. Hvað við getum beðið lengi, þá minni ég á að þrautseigja og úthald er það sem mestu máli skiptir til að ná árangri. Þarna eru gríðarlegir hagsmunir í húfi. Tugir og hundruð milljarða hanga á spýtunni . Það er einsog sumir haldi að þetta sé fyrst og fremst akademískt viðfangsefni sem komi veruleikanum nánast ekkert við, í besta falli laustengt við hann. Það vill hins vegar svo til að við erum að tala um nákvæmlega sömu krónurnar og menn í opinberri þjónustu taka upp úr launaumslaginu sínu. Því meira sem greitt er fyrir Icesave, þeim mun minna er til skiptanna í heilbrigðiskerfinu, skólunum og fyrir fatlaða. Stundum hef ég spurt sjálfan mig hvort ...
11. Mars 2010
...Ein er sú kona í ríkisstjórninni sem verðskuldar sérstakt lof fyrir framtak sitt í þágu kvenna og er það Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Að öðrum ólöstuðum er það henni að þakka að fyrsti dómur í mansalsmáli gekk 8. mars síðastliðinn en hún viðurkenndi nauðsyn þess að setja fjármagn og mannafla í þá rannsókn og vitnavernd sem þurfti til. Það er nefnilega ekki nóg að setja lagarammann það verður að vera vilji innan kerfisins til að framfylgja honum líka og meðtaka mikilvægi þess að ofbeldi karla gegn konum sé ekki liðið. Þetta gerði Ragna og með því er Ísland aðeins fjær því að vera griðastaður ofbeldismanna. Nú bíðum við bara eftir fyrsta ...
10. Mars 2010
Ég er flokksmaður í VG í kraganum og kaus þig og Guðfríði í síðasta prófkjöri. Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með samstöðuleysi þitt og hina viðkvæmu sannfæringu þína sem þér finnst þú verða að fara eftir. Þú talar mikið um þörf á samstöðu, sem mér finnst birtast í því að það sé samstaða að vera sammála þér. Ég var í Alþýðubandalaginu, og ég verð að segja að ég var dauðfeginn þegar það var lagt niður, og verstu þrasararnir stofnuðu Samfylkinguna með Alþýðuflokknum. Frá stofnun VG hef ég kosið þann flokk, nú finnst mér að ég sé kominn í Alþýðubandalagið aftur, þegar Ólafur Ragnar Grímsson, stjórnaði ...
Árni Magnússon
9. Mars 2010

Vefmiðillinn pressan.is vekur athygli á skrifum Karls Th. Birgissonar, ritstjóra tímaritsins Herðubreiðar um Icesave og aðkomu okkar nokkurra að því máli; fólks sem á það sammerkt að hafa viljað endurskoðun á þeim skilmálum sem Alþingi fékk undirritaða til umfjöllunar síðastliðið sumar. Við fáum ekki háa einkunn, erum sögð engar tillögur hafa haft fram að færa (sem er ósatt!), og það sem alvarlegra er, við erum sögð vilja „einangra landið" en þar með „kjósum" við „enn frekari samdrátt og atvinnuleysi, félagslegar hörmungar og veikingu velferðarþjónustunnar..."
Síðan talar ritstjórinn um meintan tilkostnað af töfinni á Icesave, nokkuð sem fróðlegt væri að ...
9. Mars 2010
Hefur þú séð skuldaklukku Icesave seinkunarinnar? Hún birtist á vef ungra jafnaðarmanna og byggir á útreikningum Gunnlaugs nokkurs hagfræðings sem Pétur vinur þinn hér á síðunni hefur vitnað til. Gunnlaugur hefur reiknað út að Icesave seinkunin kosti þjóðarbúið 75 milljarða á mánuði. Þannig að spörun á Icesave, ef hefði verið samþykkt væri nú komin í 900 milljarða í hreinar tekjur. Hugsaðu þér hvernig hagfræðin getur nú hjálpað okkur! Þetta kannt þú ekki Ögmundur, heldur ert bara í því að velja hvort smyrja eigi brauðið með osti eða kæfu. Þú hefðir kannski átt að fara í hagfræðikúrsinn hjá Þórólfi, þá kynnir þú að reikna og gætir sparað fyrir okkur hin. Við þurfum kannski ekkert að hugsa um velferðina, því það er nóg að taka á okkur skuldbindingar okkar og vera alvöru ...
einn óháður kjósandi VG
9. Mars 2010
Ég sem meðlimur VG frá upphafi vil fá að vita hversu langt þú vilt ganga til að ná þínum persónulegu markmiðum til að að öll dýrin í skóginum verði einhuga. Að nota þennan tíma Íslandssögunnar til að koma skítugri fortíðinni aftur að "sínum" kjötkötlum finnst mér ófyrirgefandi. Ef þú getur ekki synt með straumnum í þessu samstarfi og beint þínum áherslupunktum í rólegheitum í réttan farveg, finnst mér að þú ættir að stíga til hliðar og undirbúa betur forsetaframboðið. Með...
Gunnar
9. Mars 2010
Birtist í DV 08.03.10.

...Ekki að undra að handhöfum alþjóðafjármagnskerfisins var lítið gefið um þessa kosningu eftir að hún var sett inn í samhengið: fjármagn gegn fólki. Það er í raun ekki fráleit uppsetning. Sama fólk og lætur sér fátt um finnast þegar lögbundin kjör öryrkja eru skert ætlar upp af hjörunum ef hætta er á að maður tapi einhverjum krónum sem hann á í bankabók. Auðvitað viljum við öll að sparnaður á bankabók verði tryggður. En ekki hvað sem það kostar. Ekki á kostnað öryrkjans eða krabbameinsdeildar Landspítalans.....Þeir stjórnmálamenn sem ekki orka að rísa upp yfir sjálfa sig og þrönga eiginhagsmuni stjórnmálanna í svo stóru máli sem Icesave er, á hreinlega að flauta út af vellinum. Það verður held ég líka gert þegar....
8. Mars 2010
...Nú hafa fleiri en einn haldið því fram að "órólega deildin" í VG hafi líf ríkissjórnarinnar í hendi sér.Nú ráðist það fljótt hvort stjórnin lifi áfram eða ekki. Hver er þín skoðun?
Hrafn Arnarsson
8. Mars 2010
...Þú sást Silfur Egils í gær. Þú hefur verið lengi í pólitík. Er einhver vafi í þínum huga um pólitískt agenda Sigmundar Davíðs? Meira að segja amatörinn ég sé skýrt hvað Sigmundur Davíð ætlar sjálfum sér og sínum. Svar óskast....
Hlynur Grímsson.
7. Mars 2010

Við berum öll saman ábyrgð og okkur ber öllum að vinna saman að framhaldinu á lausn Icesave-deilunnar. Á þessa leið mælti Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í Silfri Egils í dag. Jóhanna Sigurðardóttir talaði um framhald málsins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að sinn flokkur væri ekki að draga sig út úr samningaviðræðunum um Icesave og sama var uppi á teningnum hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins. Birgitta Jónsdóttir frá Hreyfingunni kvaðst vera að skoða málið en fram kom hjá henni traust í garð samninganefndarinnar sem setið hefur á rökstólum við Breta og Hollendinga... Undir niðri í samræðunum í Silfri Egils kraumaði Sturlungaöldin. Stutt var í að menn vildu tengja Icesave og líf ríkisstjórnarinnar. Með öðrum orðum, nota Icesave til að koma ríkisstjórninni frá...
7. Mars 2010
...Nú er komin niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðsluna og hvað svo? Hvernig sérð þú næstu skref hvað villt þú gera? Er nú að hlusta á Silfur Egils eins og þú ert væntanlega líka að gera. T víburabræðurnir í stjórnarandstöðunni vilja ríkisstjórnina frá og finnst þér málflutningur þeirra góður eins og síðast þegar þú varst yfir þíg hrifin af Sigmundi er þetta það sem þú villt að fá þessa drengi til valda og ég vil fá skýr svör vegna þess að ég hef í gegnum tíðina stutt víð bakið á þér í þeim málum sem þú hefur tekið þér fyrir hendur þó svo að ég hafi ekki verið sammála þér í þessu ICESAVE máli. Mér finnst að þú eigir að koma fram...
Viðar Magnússon
7. Mars 2010
Fjármálaráðherra sagði í viðtali við sjónvarpið á kjördag að hann hefði tekið að sér starf sem enginn annar vildi. Hann bætti um betur og sagði að hann væri ekki öfundsverður. Til þess að leggja áherslu á hversu kröfuhart starfið væri sagði hann frá því að hann hefði hitt erlenda sjónvarpsfréttamenn og manað þá til að leita að arftaka fyrir sig. Hann var þess fullviss að þrátt fyrir svo víðtæka leit myndi enginn finnast. Þetta samhengi er miklu biblíulegra en maður á að venjast þegar ...
Árni V.
6. Mars 2010
Í dag er fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan frá lýðveldisstofnun. Það er mikilvægt að þjóðin taki hana alvarlega. Fólk á ekki hlusta á orð forystumanna ríkisstjórnarinnar sem hafa af dónaskap og yfirlæti kallað þennan atburð marklausan skrípaleik. Maður hefði seint trúað að heyra slík orð af vinstri væng stjórnmálanna - frá því fólki sem mest hefur talað fyrir virkara lýðræði og kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslum um stór mál. ..Við skulum ekki heldur hlusta á hrunverjana... Á kjörstað tökum við afstöðu til hagsmuna þjóðarinnar og til framtíðarinnar. Ég hef hafnað Icesave - lögunum. Mín niðurstaða er sú...
Þorkell Gunnarsson
6. Mars 2010
Enn berast fregnir af ógöngum fyrirmenna þjóðarinnar á kjördag. Nú er ljóst að Tryggvi Þór Herbertsson getur ekki kosið en hann varð fyrir því óhappi að festast í skuldabréfavafningi í gærkvöldi. Greiningardeild ríkislögreglustjóra...
Þjóðólfur
6. Mars 2010
Það hefur gengið misjafnlega hjá leiðtogum þjóðarinnar að kjósa í dag.. Í morgun handleggsbrotnaði Þráinn Bertelsson á kjörstað þegar hann datt um fávita. Þáði hann aðstoð Birgittu Jónsdóttur við kosninguna og gekk vel að sögn Þórs Saari sem varð fyrir því óhappi að festa hálstauið ofan í kjörkassanum...
Þjóðólfur
6. Mars 2010
...Við sem höfum opinn og frjóan huga viljum hins vegar virkja öll heilabú þjóðarinnar til virkra hugsjóna, athafna og sköpunar með búsældarlega framtíð okkar allra -saman- að leiðarljósi. En þannig framtíð kemur aldrei með valdboði að ofan, og alls ekki frá mönnum sem telja sig guði. Frá þannig mönnum koma bara fúl-egg. NEI, við alþýða þessa lands, viljum ekki láta leiða okkur til slátrunar á altari forræðishyggju Stalínistanna...
Pétur Örn Björnsson
6. Mars 2010
Þessi skrípaleikur sem er í boði Ögmundar, Einars og Lilju Mósesdóttur, auk útrásarforsetans, kostar þjóðina 160 milljónir sem er kannski ekki mikið miðað við það hvað svik þessarra þingmanna hefur kostað íslenska skattgreiðendur, en allt telur. Áðurnefndir þingmenn geta ekki axlað ábyrgð, þau eru ekki stjórntæk og hafa sýnt að þau eru mjög þjóðskaðleg...
Pétur
6. Mars 2010
Það er mjög mikilvægt fyrir fólk, til að taka upplýsta ákvörðun á laugardag 6. mars, að horfa á þetta myndband frá Google Video...
Birgir Rúnar Sæmundsson
6. Mars 2010
...Það sem veldur mér áhyggjum er að íslenski ráðherrann og íslenski bankamaðurinn eru líkir um margt. Íslenskir lykilráðherrar hafa í yfirlýsingum sínum um þjóðaratkvæðagreiðslu lýst þeim viðhorfum að hún valdi óhagræði, trufli vinnu þeirra í þágu góðra markmiða og niðurstaðan er fyrirframgefin sem markleysa. Ráðherrarnir hefðu miklu frekar viljað ganga til vinnu sinnar...
Árni V.
5. Mars 2010
...Furðuleg var yfirlýsing Jóhönnu Sigurðardóttur núna í kvöldfréttunum, að þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave-samninginn væri markleysa og lýsir dæmalausri fyrirlitningu á kjósendum og þjóðinni. Jafnvel þótt takist nýr samningur við Breta og Hollendinga á síðustu stundu þarf hann að fara í gegnum lögboðið ferli á þingi og fyrir forseta áður en hann öðlast gildi...
Jón Torfason
5. Mars 2010
... Ég óska þér og okkur öllum til hamingju með nýja þingmeirihlutann og forsætisráðherrana tvo eða þrjá sem þú hefur fengið völdin með aðstoð Breta og Hollendinga. Nú situr þú ekki lengur sem samviskufangi Steingríms Sigfússonar en ert orðin guðfaðir samstjórnar flokkanna sem lögðu grunninn að hruninu. Þar sem þú hefur sérstaklega ríka réttlætiskend þá legg ég til að þú losir Steingrím og Jóhönnu úr sinni óbærilegu ánauð. - Það gerir þú best með því að brjótast út úr skelinni og mynda strax nýja ríkisstjórn. Þú skalt verða forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Ég legg til að auk þín...
Kristjón Sigurðsson
3. Mars 2010
Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson er þessa dagana meira gefinn fyrir útúrsnúninga en staðreyndir. Þessi þaulreyndi rannsóknarblaðamaður segir á blogginu sínu: „Heyrði einhvers staðar að harðlínudeildin í VG væri óróleg og æst af því að hún vildi síst af öllu svíkja kjósendur sína. Kannski var þetta Guðfríður Lilja í vikulokaþætti RÚV sem tók svo til orða. Má einu gilda." Ekki er þetta nú beint á faglegu nótunum. Það má einu gilda hver talaði, segir Jóhann, og líka hvað viðkomandi sagði. Hann heyrði þetta bara einhvers staðar. Afar einkennileg vinnubrögð; ekki síst af þeim sökum hversu víðtækar ályktanir hann dregur af því sem hann heyrði einhvers staðar - eða jafnvel hvergi...
Helga Þorsteinsdóttir
3. Mars 2010
Ég vil taka undir með Lilju Mósesdóttur að við tryggjum enga velferð í landinu ef við ætlum að halda áfram að þjóna fyrst og fremst kröfuhöfum og útrásarvíkingum. Skuldsett eignarhaldsfélög verða að fá gjaldþrotaþrotameðferð þannig að hægt sé að rekja upp spillingarvefinn. Öðruvísi er ekki hægt að ná aftur uppdiktuðum arðgreiðslum sem runnið hafa til aflandseyja. Furðulegt er að skiptastjórnir bankanna hafi ekki ...
Bjarni
3. Mars 2010

Ég fagna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Hún er tækifæri til að segja yfirgangs- og fjármagnsöflum að þegar hagsmunir fólks og fjármagns takast á, þá á fólkið að láta til sín taka. Á Íslandi býðst okkur farvegur lýðræðisins til að láta rödd okkar heyrast. Þennan farveg eigum við að breikka og dýpka. Sú viðleitni er hafin. Við erum að hefja vegferð inn í nýja tíma. Inn í opnara samfélag þar sem forræðishyggja víkur fyrir virkara lýðræði. Þetta grætur forræðishyggjan. Hún vill að lýðræðið taki bara til hundahalds og tímastillingu á klukkunni. Fram hefur komið að...
2. Mars 2010
Mér fannst athyglivert að lesa pistil Jónu Guðrúnar hér á síðunni, en höfundur segist þar hætt að versla í Melabúðinni vegna þess að kaupmaðurinn sé fylgjandi sölu léttvíns og bjórs í verslunum. Nú er það skoðun mín að sala alls áfengis ætti að vera frjáls. Ég er líka þeirrar skoðunar að ekki sé hagkvæmt að selja aðeins bjór og léttvín í matvöruverslunum en halda sterku áfengi áfram í verslunum ríkisins. Þá sé kannski betra að hafa bara ríkið áfram. Kaupmaðurinn í Melabúðinni er greinilega ekki alveg sammála mér um þetta. Ég mun samt ekki hætta að versla við hann. Sú skoðun að kaupmenn eða aðrir "sem eiga allt sitt undir kúnnunum" megi ekki hafa ...
Þorsteinn Siglaugsson
2. Mars 2010

Jóhann Hauksson, fréttamaður, hefur skrifað meira en flestir menn til stuðnings Icesave samningum og alltaf stutt af miklum móð þá niðurstöðu sem legið hefur fyrir hverju sinni. Hann studdi Icesave samniginn eins og hann var lagður fyrir Alþingi í byrjun júní, síðan aftur í ágúst og loks í desember. Svo var á Jóhanni að skilja að það nálgaðist skemmdarstarfsemi að setja fyrirvara við samninginn eins og gert var áður en yfir lauk í ágústlok. Þegar Bretar og Hollendingar féllust ekki á þá fyrirvara og Alþingi tók að nýju til við málið, reis Jóhann Hauksson upp að nýju til að verja lakari útgáfuna...
2. Mars 2010
...Ertu ekki annars þingmaður ennþá? Sennilega þýðir þó lítið að spyrja Jóhönnu. Hún er búin að lýsa því yfir í Kastljósi fyrir alþjóð að hún "sé agndofa" yfir þessu -svo þú skalt reyna við Steingrím frekar. Þú getur líka minnt hann á loforðið sem hann og þið gáfuð okkur vinstri mönnum og þjóðinni allri fyrir kosningar. Hvernig hljómuðu þau annars? Eitthvað um heiðarleika, gagnsæi, allt uppi á borðinu, skjaldborg fyrir heimilin var það ekki? Einhver gekk, meir að segja svo langt að lofa nýju Íslandi! Þig hlægið ykkur væntanlega máttlaus yfir þessum loforðum sem ykkur tókst að matreiða ofan í þjóðina en ekki að halda. En það máttu vita...
Margrét Þ. Johnson
2. Mars 2010

Vefmiðillinn
www.smugan.is hefur nú verið opnuð að nýju undir ritstjórn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur. Hún er án nokkurs vafa einn kröftugasti fréttamaður landsins, býr yfir mikilli reynslu og nýtur virðingar í stétt fréttamanna. Til marks um það er að hún hefur verið kjörin til að vera í forsvari stéttarinnar sem formaður Blaðamannafélags Íslands. Lofar ráðning Þóru Kristínar góðu um framtíð Smugunnar.
Um fréttamiðil sinn segir Þóra Kristín m.a...
2. Mars 2010
Birtist í Fréttablaðinu 01.03.10.

...ýmsum spurningum þurfi að svara áður en haldið er lengra út í þetta einkavæðingarferli. Þær snúa bæði að aðgengi að heilbrigðiskerfi okkar og einnig að pyngju skattborgarans: Munu íslenskir sjúklingar geta sótt lækningu á nýja sjúkrahúsinu? Koma íslenskar sjúkratryggingar til með að borga? Hvaða lög og reglur gilda um EES-sjúklingana? Hvað um réttindi þeirra sjúklinga? Þegar íslenskir útrásarfjárfestar komust yfir búlgarska símann fyrir fáeinum árum...
1. Mars 2010
...Í dag hætti ég að kaupa inn í Melabúðinni. Ástæðan er sú að kaupmaðurinn vinsamlegi setti Melabúðina undir pólitískan áróður Heimdalls og tróð sjálfur upp í auglýsingu fyrir bjórsölu og léttvíns í búð sinni. Ég hef verslað í Melabúðinni í áratugi, en nú er það sem sé búið. Ég vona að fleiri fylgi fordæmi mínu þar til kaupmaðurinn biðst forláts. Mér finnst að kaupmenn, bankastjórar, og þeir sem eiga allt sitt undir okkur, kúnnunum, ættu að ...
Jóna Guðrún
1. Mars 2010

Ósköp þykir mér dapurlegt þegar aðilar sem ég þykist vita að vilji vera samfélagslega ábyrgir falla á mikilvægu siðferðisprófi. Þetta kom mér í hug þegar ég fór inn á síðu vefmiðilsins visir.is í morgun og við blasti lokkandi auglýsing sem beint var til spilafíkla um aðgang að spilavíti á netinu...
28. Febrúar 2010
Ég álít, að kominn sé tími til, að utanríkisráðherra fari fram á það við sendiherra Íslands í Danmörku, að hann láti sendiráðið taka saman yfirlit um umræðu þá er fram hefur farið un einkasjúkrahús í Danmörku og eru rekin á sömu forsendu og hugmyndafræðingar einkarekinna sjúkrahúsa á Íslandi eru að reyna að koma á. Fyrrverandi heilbrigðisráðherra Dana...Aldrei verður því trúað, að ekki sé búið að reikna þetta allt saman út...
S
28. Febrúar 2010
Það er í lagi að nota stór orð af því forsetinn synjaði Icesave-lausn II staðfestingar. Röksemdirnar eru þessar: Forsetinn fór á svig við það sem menn ætluðu sér með lögunum frá 1944, ekki bara í Icesave II málinu heldur almennt talað. Hann misskilur lögin! Skilningurinn rétti er sá að .... Hér hefði þurft að spyrja: Ef íslenska þjóðin er Jesú Kristur kapítalismans hver er þá Guð almáttugur? Og áfram má spyrja út frá hnjóðsyrðum um forseta Íslands í fjölmiðlum, nú síðast í Fréttablaðinu: Af hverju ekki að láta forsetann í friði?
Ólína
28. Febrúar 2010
Birtist í Morgunblaðinu 27.02.01.

...Eða stendur einhver í þeirri trú að skattborgarinn eigi hvergi að koma nærri? Halda menn að fjárfestirinn ætli ekki að hafa neitt upp úr krafsinu? Í umræðu um einkarekna spítala á Alþingi nýlega var ég spurður hvers vegna ég vildi ekki leyfa einkaaðilum að fara sínu fram. Því er til að svara að fyrir mér mega einkaaðilar reisa alla heimsins spítala. En þegar þeir ætlast til þess að ég borgi fyrir reksturinn úr mínum skattborgaravasa þá vil ég vera með í ráðum...
27. Febrúar 2010
Á að leyfa loftbólusnillingunum að eyðileggja sameiginlegt velferðarkerfi þjóðarinnar á nokkrum árum? Og ætla þá stjórnvöld að taka við brunarústunum - takast á við frjálshyggjuhrun nr. 2 eftir fáein ár? Hvar eru stjórnvöld eiginlega stödd - hafa þau ekkert lært? Og hefur Róbert Wessman heldur ekkert lært? Getur hann ekki skilið að þjóðin vill ekkert með þetta óþurftar framtak hans að gera. Hún vill ekki að okkar sameiginlega velferðarkerfi verði sett í krumlur gróðapunga. Nóg er nú samt að snillingarnir tæru, skuldapungarnir, lögðu efnahagskerfi þjóðarinnar...
Þjóðólfur
26. Febrúar 2010

...Ef haldið verður áfram að þrengja að Íslandi þegar við nú reynum að rísa á fætur og höfnum Icesave ofríkinu og okkur hótað öllu illu í framhaldinu, greiðslufalli og lokun á lánalínum, hvernig væri að lífeyrissjóðirnir minntu á eignir sínar í útlöndum; að þegar kæmi að erfiðri endurfjármögnun á árunum 2011-2012 þá minntu lífeyrirssjóðirnir á eignir sínar í útlandinu - 500 milljarða í erlendum eignum - að þeir kæmu Íslandi til varnar á ögurstundu? Þetta þjónaði hagsmunum lífeyrissjóðanna, þetta þjónaði hagsmunum Íslands, þetta þjónaði hagsmunum okkar allra. Er þetta ekki augljóst mál? Mér finnst það. Reyndar held ég að staðan sé ekki eins slæm og úrtölumenn láta í veðri vaka - nú síðast talsmenn ASÍ og SA...
26. Febrúar 2010
Árið 2010 verður ár umbreytinga í íslensku þjóðfélagi,ár hins almenna launþega. Launþeginn sem hefur stritað fyrir óðalsbændur, kaupmenn, hermangara og kvótaeigendur frá upphafi byggðar hefur nefnilega fengið sig fullsaddan! Í fyrra vor settist svokallaður vinstriarmur fjórflokksins að völdum og óneitanlega kveikti vonir í brjósti fólks um alvöru breytingar og gagnsæi í verkum stjórnvalda, óhætt er að halda því fram að þær vonir urðu að engu nema vonbrigðum í besta falli og nægir að nefna í því sambandi þann mikla tíma og fjármuni sem varið hefur verið í Esb umsókn (í óþökk þjóðarinnar) og tilraunir til að samþykkja icesave (í óþökk þjóðarinnar).
Ég vil leggja fram þá tillögu að stofnaður verði nýr stjórnmálaflokkur, nýtt afl sem ...
Gunnar Freyr Hilmarsson
24. Febrúar 2010

...Í tilefni þessara orða og annarra áþekkra langar mig til að varpa fram þeirri spurningu til umhugsunar hvort við berum ekki ábyrgð gagnvart almenningi í öðrum löndum en okkar? Miklar umræður fara nú fram um það innan Evrópusambandsins hvaða afleiðingar milliríkjaverslun með heilbrigðisþjónustu hafi fyrir almannaþjónustuna. Margir óttast að þetta komi til með að grafa undan henni. Áköfum bisnissmönnum virðist það hins vegar koma lítið við. Ég lít svo á að hér beri Íslendingum að sýna ábyrgð. Hluti af útrásar-hugarfarinu var að í góðu lagi væri að græða á útlendingum B...Því var til dæmis fagnað ákaft þegar íslenskir
„fjárfestar" gleyptu landssímann í Búlgaríu í samstarfi við...
24. Febrúar 2010

...Reyndar hafa grunsemdir vaknað um góða dómgreind hjá einhverjum skilanefndarmönnum, til dæmis þegar í ljós kom að þeir höfðu látið
eigin lögmannsstofur sinna erindum fyrir sömu skilanefndir og þeir sátu í sjálfir, fyrir himinháar upphæðir! Það kann að hafa verið löglegt - en siðlaust einsog Vilmundur sagði forðum. En hvað með það sem augljóslega er ólöglegt? Telja skilanefndir sig skuldbundnar - þó ekki væri nema siðferðilega - til að skjóta slíkum málum til rannsóknar hjá skattinum? Mér leikur forvitni á að vita þetta. Þess vegna hef ég óskað eftir því að skattrannsóknarstjóri...
24. Febrúar 2010
Fjárglæfrastofninn íslenski var í útrýmingarhættu þegar VG og Samfylkingin tóku við stjórnartaumunum í febrúar 2009. Síðan hafa velferðarflokkarnir okkar grænu unnið kraftaverk - ekki bara með allsherjarfriðun stofnsins heldur alls kyns aðgerðum honum til aðhlynningar. Þar hefur ...Geri ég það loks að tillögu minni að stjórnin láti vinna heildstætt umhverfismat á almenningi til að skanna frekara greiðsluþol hans. Það er nefnilega mikilvægt að láta ekki staðar numið við uppbyggingarstarfið - fólkið í landinu verður að gjöra svo vel að láta af hendi rakna í samræmi við getu. Allir verða að leggjast á eitt og veita fjárglæfrastofninum áframhaldandi vaxtarmöguleika og fljúgandi byr inn í nýtt ...
Þjóðólfur
23. Febrúar 2010
...Jónína Bjartmars, fyrrum heilbrigðisráðherra, hitti líka naglann á höfuðið þegar hún segist hafa "efasemdir um þjóðhagslegt gildi þess að koma á fót einkasjúkrahúsi/húsum á Íslandi. Meðal annars vegna þess að ég tel það fyrirsjáanlega fyrsta vísinn að tvöföldu heilbrigðiskerfi." Ég hvet til umræðu um þessi mál. Hver ákveður að hefja þetta ferli og þessa ráðstöfun á almannafé ( fram kemur að peningarnir koma úr ríkissjóði - eða hvað?).
Einhverjum kann að koma spánskt fyrir sjónir að læknir í einkapraxís skrifi þessar línur. En ég er ...
Sjálfstætt starfandi læknir
23. Febrúar 2010

...Fram kemur í Morgunblaðinu í morgun að Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, hafi beitt sér í þessu máli innan Kennarasambandsins og þá ekki síður í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins þar sem hann á sæti. Fram kemur að á fyrri staðnum átti þetta sjónamið góðan hljómgrunn. Vonandi verður hið sama uppi á teningnum hjá lífeyrisjóðunum sem komið hafa á fót svokölluðum Framtakssjóði, sem er hugsaður til að örva atvinnulífuið.
Framtakssjóðurinn olli deilum á sínum tíma - það þekki ég frá eigin stjórnarsetu í LSR - og vil ég taka undir það með Eiríki Jónssyni að lífeyrissjóðirnir verða að vanda sig ef þeir ætla ekki að misbjóða eigendum sínum, sjóðsfélögunum. Í viðtali við Eirík í Morgunblaðinu í morgun segir Eiríkur: „
Ég vil ekki sjá Framtakssjóðinn notaðan til þess að endurreisa einhverja víkinga sem hafa skilið eftir sig slóðina af afskrifuðum skuldum...
21. Febrúar 2010
Þakka þér fyrir greinarnar um einkasjúkrahús í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Ég treysti því eins og þú, að læknar hugsi sig nú um og geri sér grein fyrir því í fullri alvöru hvað felst í einkasjúkrahúshugmyndunum Róberts Westmanns og Árna Sigfússonar, og hvar hagsmunir þeirra liggja. En það eru líka aðrir sem þurfa að hugsa sinn gang því fleiri bera ábyrgð á einkavæðingaráformum íslensku heilbrigðisþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli.
Kadeco, fyrirtæki í eigu íslenska ríkisins, er gerandi og forsendan í einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar syðra. Það fyrirtæki starfar samkvæmt þjónustusamningi við fjármálaráðuneytið....Ætli þetta sé skipulagt að kröfu AGS? Ætla kannski lífeyrissjóðirnir að fjármagna þetta? Ég held að einkasjúkrahúsið í Miðnesheiðinni gæti hæglega orðið banabiti VG gagnvart kjósendum þegar þeir um síðir átta sig á hvert það leiðir og hver ...
Ólína
21. Febrúar 2010
Nú er það svo að í hinum stóra heim fjármagnsins eru bankar og fjármálastofnanir reknir af græðgi. Ég hef ásamt að ég hygg mörgum öðrum verið að hugsa um hvað hægt sé að gera í þessum málum. Mér hefur dottið í hug banki, banki alþýðunnar. Sparisjóður sem þjónaði litlum bæjarfélögum (eða hverfum á hb-svæðinu) þar sem fé bæjarbúa er lagt í sjóð sem væri nóg til að geta...
Ágúst Valves Jóhannesson
20. Febrúar 2010
Birtist í Fréttablaðinu 19.02.10.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar kveðst hafa miklar væntingar um fjárhagslegan ávinning og atvinnusköpun vegna nýs einkarekins sjúkrahúss á Suðurnesjum á vegum fjármálamannsins Róberts Wessman. Er talað um að sjúklingar geti orðið allt að 1000 á fyrsta ári starfseminnar, störf sem skapist í tengslum við verkefnið nemi um 300 og heildartekjur af starfseminni geti orðið 3,5 milljarðar á ári. Okkur er kynnt þetta sem nýsköpun, framlag einkageirans til atvinnuuppbyggingar, nánast fundið fé...
20. Febrúar 2010
Birtist í Morgunblaðinu 19.02.10.
Hér á landi hafa verið skýrar markalínur á milli almannaþjónustu og einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu. Annaðhvort hafa sérfræðingar og aðrir starfsmenn verið á samningi við ríkið eða ekki. Þessi landamæri kunna nú að raskast. Í tengslum við áform um að reisa einkasjúkrahús á Íslandi, eins og Róbert Wessman og félagar hafa uppi áform um, er talað um að flytja inn sérfræðinga til landsins og jafnframt nýta innlenda lækna og annað starfsfólk. Að sögn eiga að vera þarna einhver skil á milli. Þá hefur verið talað um að aðgreina innflutta sjúklinga og innlenda...
20. Febrúar 2010
Í framhaldi af pistli þínum, "Aftur" langar mig að spyrja: Hvað ætlar þú að gera, Ögmundur? VG gerir ekkert - þú ert í VG, þú styður þá ríkisstjórn sem gerir ekkert til varnar heimilunum en býr í haginn fyrir bankakerfi og aðrar fjármálstofnanir svo þær geti búið í haginn fyrir fjármagnseigendur. Svo allt geti orðið áfram eins og það var! Hvað ætlar þú að gera? Helst vildi ég sjá þig ...
Guðmundur Brynjólfsson,
fyrrverandi félagi í VG
20. Febrúar 2010
Ekki finnst mér ganga nokkuð, að koma á breytingum á Íslandi. Allt virðist vera enn í sama farinu, bankaráðsmenn skammta sér ofurlaun og útrásarvíkingar látnir í friði og geta, að því er virðist haldið áfram að spila sama leikinn, samanber Ólaf Ólafsson í Samskip, sem er að mínu mati, ekkert annað en bankaræningi. Ekki hefur verið hreyft við stjórnsýslunni en allir vita, að allir hæstaréttadómarar, yfirmenn stofnana, sýslumenn og fleiri, eru ráðnir pólitiskt en ekki eftir hæfni. Engar breytingar, allir sitja á sínum stað enn og ekki skeður nokkur skapaður hlutur, annað en að forsætisráðherra heldur áfram gælum sínum við Evrópubandalagið. Á þjóðin að ...
Friðjón Steinarsson
19. Febrúar 2010
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sá ástæðu til þess í hádegisfréttum í dag að reyna að normalísera ummæli, sem höfð eru eftir sendiherra Íslands í Bandaríkjunum í samantekt starfsmanns bandaríska sendiráðsins sem hann sendi til yfirboðara sinna Washington. Nú ætla ég ekki að hafa skoðun á regluverkinu sem reyndustu diplómatar við Rauðarárstíg styðjast við og alls ekki hvernig menn inna af hendi það sem þeim væntanlega er falið. Haft er eftir utanríkisráðherra að hann ...
Ólína
19. Febrúar 2010
...Um eitt er ég altént sammála Viðskiptaráði í nýrri ályktun: Það verður að passa að stjórnmálamenn láti ekki undan öflugum þrýstihópum. Samkvæmt reynslu fyrri ára hlýtur Viðskiptaráð þar að vera að vara við sjálfu sér og sínum eigin öflugu áhrifum innan Stjórnarráðsins á árunum fyrir hrun. Þökk sé höfð fyrir áminninguna. Hún er áríðandi sem aldrei fyrr og mál til komið að stjórnmálamenn hlusti meira á grasrótarsamtök fólksins í landinu heldur en hagsmunasamtök fjármagnsins...
19. Febrúar 2010

Sveitarstjórnarkosningar nálgast. Flokkarnir eru þessa dagana að velja frambjóðendur á lista. Á ýmsu hefur gengið. Sitt sýnist hverjum um uppröðun á listana. Það á við norðan heiða og sunnan. Hvernig ætti annað að vera? „Ég styð hana eða hann, þú styður hann eða hina". Og sannfæring okkar er mikil....Það tekur á þegar félagar deila. Svo lýkur því. Einsog nú í Reykjavík....Nú reynir á að við fylkjum liði: Í þágu tekjulágra, atvinnulausra, húsnæðislausra, í þágu jafnréttisbaráttu, í þágu jafnaðar, í þágu umhverfisverndar, í þágu skynsemi og lýðræðis, gegn peninga - og forræðishyggju. Nú segjum við öll, stuðningsmenn VG í Reykjavík...
19. Febrúar 2010
Hvað varð af allri virðingu þeirra sem stjórna okkur fyrir grasrótinni ? Grasrótin kraumar eins og Katla sem hefur ekki gosið lengi, spurningin er hvenær gýs Katla eða grasrótin best væri að Katla myndi gjósa á undan, Ríkisstjórninni hefur mistekist að koma bönkum landsins í trúverðulegar hendur. Það er með ólíkindum að lántakendur skuli þurfa að bera allann kostnaðinn en bankarnir knésetja fólk hægri og vinstri og lögfræðingar græða á tá og fingri. Það sem þarf er að virkja fólkið ...
Hafsteinn Örn Guðmundsson
19. Febrúar 2010
Ólíkt hafast þau að flokkssystkini þín Björn Valur og Guðfríður Lilja. Svo virðist sem Björn Valur sé að andæfa grein Guðfríðar Lilju sem vogar sér að þakka Evu Joly fyrir hennar hlut. Þar með vogar Guðfríður sér að þakka manneskju sem ekki er bara málpípa stjórnvalda heldur kona með sjálfstæðar skoðanir. Slíkt er náttúrulega ólíðandi. Björn Valur hamaðist á því í allt sumar að þetta væri frábærir samningar, góðir samningar, samningarnir sem þú varst rekinn úr ríkistjórn fyrir að mótmæla. Ég furða mig enn á því að vinstristjórnin sem boðaði nýtt Ísland skuli standa fyrir slíkri skoðanakúgun og hafi rekið manninn úr sínum röðum sem harðast barðist gegn útrásarruglinu og þorði að andæfa bönkunum þegar það var óvinsælt. Þar gekkst þú ...
Fyrrum félagi í VG.
18. Febrúar 2010

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, skrifar athyglisverða grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún skýrir hvers vegna hún telji vera komna upp nýja og betri stöðu í Icesave. Málið hafi verið komið í blindgötu á Alþingi. Þar hefði ekki verið frekari framfaraskrefa að vænta. Guðfríður Lilja fagnar því að málið sé nú komið í lýðræðilsegan farveg þjóðaratkvæðagreiðslu enda studdi hún tillögu þess efnis á Alþingi.
Í greininni bendir hún á þá lykilstöðu sem Eva Joly hafi gegnt í viðureign Íslendinga við erlend hagsumaöfl sem að okkur sækja og hversu þakkarvert hennar framlag hafi verið málstað Íslands til styrktar. Um aðkomu Evu Joly segir...
18. Febrúar 2010

Róbert Wessman er frumkvöðull og drifkraftur að baki nýju einkavæðingarátaki í heilbrigðisgeiranum. Til stendur að reisa einkasjúkrahús á Suðurnesjum, fyrir 1000 sjúklinga með 300 störfum. Svo er að skilja að fjármögnun komi frá sjóði sem eigi mér og þér tilveru sína að þakka... Er það fyrirheitna landið? Nýtt heilbrigt Ísland? Hugsum fyrst. Framkvæmum svo. Það er nóg af því komið að hafa þetta omvent einsog danskurinn segir.
17. Febrúar 2010
Það gladdi mig Ögmundur að sjá hvað þessum gestapennavettvangi var gert hátt undir höfði í skrifum Þórólfs Matthíassonar í blaðagrein um daginn. Það var þó kannski á þinn kostnað þar sem þér var brigslað um að vera höfundur þeirra skrifa sem birtast í þessum dálki. Þó ritstörf Þórólfs séu ekki mitt aðaláhugamál finnst mér skrif hans nú eiga meira erindi við mig en áður og vildi gjarna rita á síðuna hugleiðingu um hans síðasta innlegg, ef þú vildir vera svo vænn að taka hana til birtingar. Nú les ég sjaldan Fréttablaðið af ýmsum ástæðum, en sá ...
Árni V.
17. Febrúar 2010
Það eru fleiri en þú Ögmundur agndofa að horfa uppá þá vitleysu að bankaræningjar eins og Ólafur Ólafsson sölsi undir sig Samskip enn eina ferðina á meðan hann undirbýr gjaldþrot eignarhaldsfélagsins Kjalar, sem ... Leggðu fram frumvarp til að ná lögum yfir þessa menn án tafar. Safnaðu liði á þingi og innan þíns flokks sem er í ríkisstjórn til að vinna málinu fylgi. Öskraðu ef á þarf í pontu Alþingis á sofandi þingheiminn um að fá hryðjuverklög sett á þessa fjárglæframenn, því þetta eru fjárhagsleg hryðjuverk sem eru að leggja þjóðfélag okkar í rúst og hryðjuverkamennirnir munu planta hverri fjárhagslegri sprengjunni á eftir annarri þar til þeir eru komnir bakvið lás og slá.
Ástþór Magnússon
17. Febrúar 2010

Vinur minn einn er spilafíkill. Hann er líka öryrki. Hann ætlaði í dag að kaupa í matinn fyrir komandi mánuð - einsog hann og kona hans gera í hverjum mánuði. Í vasanum voru 95 þúsund krónur -peningar sem þurftu að duga lengi. Á vegi vinar míns var Gullnáman. Hún er sem kunnugt er spilavíti í eigu Háskóla Íslands. Það sem upp úr námunni kemur - í dag sem endranær - er notað til að fjármagna byggingar okkar ástsælu menntastofnunar, HÍ. Gullnáman býr ekki yfir neinum verðmætum að morgni dags - öðru en þá klinki til að hefja daginn. Í dagslok glóir hins vegar gullið. Þá hafa vinur minn og...
17. Febrúar 2010

Í morgun áttum við Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB stórfróðlegan fund með José Sojo, sendiherra Venezuela á Íslandi með (aðsetur í Osló), í höfuðstöðvum bandalagsins. Það er óneitanlega önnur mynd sem dregin er upp af gangi mála í þessu umtalaðasta ríki Suður- Ameríku en gert er að jafnaði í stærstu fjölmiðlum heims. Hvers vegna er Venezuela umtalað? Jú, vegna harðdrægni Hugos Chavez, forseta og stjórnar hans, í garð fjölþjóða-auðvaldsins sem fyrir stjórnartíð forsetans var að verða talsvert ágengt í að éta upp auðlindir landsmanna. Olíuiðnaðurinn í Venezuela hafði verið í þjóðareign frá miðjum áttunda áratugnum en í ...
17. Febrúar 2010
...Núna, þegar jafnvel spilltustu afrísku harðstjórar gerast helst til of heimtufrekir fyrir sig og sín ættmenni, er sem betur fer enn hægt ad gera góðan "deal" vid íslenzka pólítíkusa. Arfi komandi kynslóða Íslendinga,- orkulindunum -, er fórnað fyrir skammtíma hagsmuni og vonina um ad komast inná næsta Alþingi. Með bestu kveðjum,
Orri Ólafur Magnússon, Þýskalandi
17. Febrúar 2010
Vandi fylgir nú nafni mínu. Þórólfur Matthíasson verður að átta sig á að ég er ekki Pétur. Mér finnst hálf grínaktugt að þurfa að benda honum á að ég er sem sagt ekki Pétur, heldur Pétur Örn Björnsson og ég er alls ekki uppdiktuð persóna. Það rennur blóð um æðar mínar og mér sveið eins og fleirum þegar ...
Pétur Örn Björnsson
16. Febrúar 2010
...Þetta er kostnaðurinn við að hafa auðhring sem ræður yfir fjölmiðlum þessa lands. Jæja Ögmundur hvað er til ráða? Af hverju er samkeppnisstofnun ekki löngu búin að brjóta auðhringinn upp? Skilst reyndar að hún hafi ekki völd til þess en af hverju er því ekki kippt í liðinn? Hvar eru fjölmiðlalögin? Eins og ég sé þetta þá eru völd JÁJ nú þegar svo mikil að mögulega ráðum við einfaldlega ekki við hann. Hann virðist hafa Samfylkinguna í vasanum. Sjálfstæðisflokkurinn tók við ...
Hjalti
16. Febrúar 2010
...Hvað finnst þér um það að nú séu uppi hugmyndir um að breyta Heilsuverndarstöðinni í Icelandair-hótel? Mér brá amk. þegar ég sá þessa fyrirsögn á forsíðu Fr.bl.5.2.2010. Það sem mér finnst sérstaklega ömurlegt við þetta er að á sama tíma eru uppi hugmyndir um að byggja "monster" í miðbænum. Það "monster" - með tilheyrandi ógurlegum gatna-slaufum og vafningum - er ætlað að hýsa nýjan Landsspítala. Ég get fullyrt að...
Pétur Örn Björnsson
16. Febrúar 2010
Þakka þér fyrir greinina þína um Álftanes og ágæta athugasemd um sama mál í síðdegisútvarpinu í síðustu viku. Fjallaði um það á blogginu mínu fyrir helgi (annabjo.blog.is). Staða okkar er erfið og ástæðurnar hvorki ein né tvær, heldur margar. Við ætlumst til réttlætis en ...
Anna Ólafsdóttir Björnsson
16. Febrúar 2010
...Allt frá árinu 1994 hef ég sjálfur glímt við spilavanda sem hefur komið og farið. En þótt ég hafi í talsvert langan tíma haldið mig frá spilakössum þá kviknar alltaf löngun þegar auglýsingar birtast frá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í að ná til spilafíkla. Staðreyndin er sú að TÖLFRÆÐILEGA tapar spilarinn alltaf. Hver færi að starta rekstri sem væri fyrirfram glataður? Húsið - spilakassinn - spilavítið græðir ALLTAF. Á hverjum? Ja, hverjir skyldu spila mest? Eru það ferðamenn sem hafa verið að spila í Gullnámunni svo dæmi sé tekið? Ekki hef ég rekist á þá. Rök Arnars Gunnlaugssonar með spilavíti eru þau, svo ég taki hann sem dæmi um mann með slaka siðferðiskennd (sem er mitt persónulega mat), að flestir hafi gaman af því að spila og leggja undir. Það er rétt að flestir ...
Spilafíkill
15. Febrúar 2010
Þakka þér fyrir málefnalega og góða framsetningu á málefnum Álftnesinga á vefsíðunni. Áform þín um að taka upp umræðu um vanda sveitarfélaga á Alþingi eru vissulega tímabær og ánægjulegt til þess að hugsa ef það megnar að slá á þá frasakenndu fordæmingu sem hefur dunið á Sveitarfélaginu Álftanes frá því í ágúst á liðnu ári. Það er óskandi að umræðan og misjöfn staða sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fari að snúast um það brýna verkefni að gera allt höfuðborgarsvæðið að einu skipulagssvæði, með ...
Kristinn Guðmundsson
15. Febrúar 2010

Sjaldan finnur maður fyrir eins notalegri tilfinningu og við að verða vitni að björgunarsveitum að störfum. Það gerum við alltaf annað veifið í gegnum fjölmiðla þegar sveitirnar eru kallaðar út einsog gerðist í gær þegar á þriðja hundrað björgunarsveitamanna héldu til leitar á Langjökli að konu og dreng sem þar höfðu týnst. Leitin bar árangur. Því fylgdi mikil gleðitilfinning. Enda unnin hetjudáð. Móður og syni bjargað úr lífsháska. Hvað er svona notalegt við tilhugsunina um björgunarsveitirnar? Auðvitað...
14. Febrúar 2010
... Sammála er ég þér um furðulegheitin í stjórnmálunum á Íslandi nú um stundir. En kannski hefur það alltaf verið svona. Ég þekki það ekki nógu vel. Annars var ég að lesa ævisögu Þórbergs í tveimur bindum eftir Pétur nokkurn Gunnarsson. Langaði til að deila því með þér sem stendur um klofning Alþjóðasambands jafnaðarmanna með tilkomu Sovét; annars vegar krata og hins vegar komma...Datt þú í hug, og staðan í þinni annars ágætu hreyfingu, við lesturinn. Og hollt gæti verið honum Pétri, ötulum síðuskrifara þínum, að lesa bók nafna síns, bestu kveðjur með von um ásættanlega niðurstöðu í Icesave.
Óháður kjósandi vg
14. Febrúar 2010

...Menn segja að hugsanleg brot kunni að vera fyrnd. Það breytir því ekki að framganga stjórnmálamanna og hlutaðeigandi bissnismanna mun aldrei fyrnast i huga þjóðarinnar. Þess vegna þarf að fá málið rannsakað. Að sjálfsögðu verður beðið eftir rannsóknarskýrslunni því á þessu stigi eru þetta getgátur. En sé þessi raunin - ef horft er framhjá einkavinavæðingu bankanna - mun koma fram formleg krafa um rannsókn. Ég mun sjá til þess....
14. Febrúar 2010
...Ég verð seint talinn stuðningsmaður þinn þótt mér finnist þú alltaf hreinn og beinn. Sennilega er ég hægri krati, en nóg um það. Mér ofbýður svo það sem er að gerast í bönkunum á hinu "Nýja Íslandi" að maður er eiginlega bugaður. Hversu oft getur maður misst andlitið yfir þeim fréttum sem dynja daglega á manni nú um stundir? ...Steldu nógu miklu.... Ég þakka þér fyrir að ...
Guðmundur Ólafsson
14. Febrúar 2010
...Inni á Eyjunni fann ég bloggfærsluna þína sem geymir varnaðarorðin um að forðast dómhörku og þakka þér kærlega fyrir orð þín í henni. Það eru orð í tíma töluð. Til gamans má vitna í Helgakver sem börn skyldu eitt sinn læra utan að. Þar segir um syndirnar: "Syndirnar eru misstórar og verðskulda misjafna hegning. Sumar eru ...
ES
14. Febrúar 2010
Þórólfur Mattíasson er afsprengi þeirrar hugmyndafræði að öllu sé til þess fórnandi að ganga inn í ESB. Íslendingar þurfa uppgjör, út með spillinguna, stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá. Spennitreyju á sjálftökuliðið. Þeir sem geta sameinast um þessi grundvallaratriði þurfa að bera gæfu til þess að snúa bökum saman. Að öðrum kosti erum við...
Gunnar Skúli Ármannsson
13. Febrúar 2010

...Á sama tíma og menn beina vísifingri að Álftanesi er verið að afskrifa skuldir fyrirtækja, í milljarðavís...En á eitt að gilda um fyrirtæki, annað um samfélag? Ætti þetta kannski að vera öfugt? Að sveitarfélag væri látið njóta betri fyrirgreiðslu en fjármálamenn og fyrirtæki? Þarf ekki að skoða til hvaða verkefna lánsfjármagnið rann? Hvort það var í hallir og einakþotur eða til uppbyggingar samfélags? Þetta þarf nefndin sem nú rýnir ofan í buddu Álftnesinga að íhuga. Hún þarf líka að skoða greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hefur Álftanes setið við sama borð og aðrir? Ég spyr. Ekki bara hér. Ég mun spyrja um það á Alþingi ...
12. Febrúar 2010

...Eftir að Mandela og félagar tóku við stjórnartaumunum var
Sannleiksdómstóll settur á laggirnar. Krafan var um sannleikann - og allan sannleikann - upp á borðið. Þegar það hafði verið gert var verkefnið að fyrirgefa og sættast. Eitthvað í þessu kann að eiga erindi við okkur Íslendinga. Mér varð hugsað til þessa þegar ég sá forsíðu DV í dag. Þar voru myndir af nokkrum stjórnmálamönnum og embættismönnum. Fyrirsögnin var
„Grunuð." Nú hef ég ekki séð grunsemdirnar útlistaðar.
En ég vara við því að búa til glæpamenn úr velviljuðu og heiðarlegu fólki sem kann að hafa unnið sér það til saka að hafa sýnt fyrirhyggjuleysi, andvaraleysi - augljóst nú eftirá en ekki endilega þá. Yfirsjónarbrot eru ekki sama og ....
12. Febrúar 2010

...Þetta er ekki rétti tíminn til að hefja hatrammar deilur um það hvort íslensk stjórnvöld hafi verið búin að skuldbinda okkur óafturkræft haustið 2008. Sjálfur tel ég af og frá að svo hafi verið. Þetta þarf að sjálfsögðu að leiða í ljós af sagnfræðilegri nákvæmni. Best er að gera það áður en fréttyfirlýsingar eru gefnar út í Bretlandi og Hollandi í aðdraganda nýrrar samningalotu. Alla vega eru slíkar yfirlýsingar óheppilegt upplegg fyrir þá samninganefnd sem nú freistar þess að bæta stöðu Íslands...
12. Febrúar 2010
Erum við eitt, Ögmundur, þú og ég? Allavega gæti maður haldið það þegar maður les skrif hins hámenntaða prófessors, Þórólfs Matthíassonar þar sem hann lætur að því liggja að þú hafir skrifað bréf sem ég skrifaði og sendi inn á síðuna þína undir eigin nafni. Maður fer bara að efast um eigið sjálf þegar prófessorinn fer að ýja að því að ég sé alls ekki ég sjálfur heldu þú. Eða ert þú kannski ég ? Ég gat ekki alveg ráðið í það í skrifum prófessorsins. Kannski erum við hvorugur okkar og þá kannski einhver allt annar. Prófessorinn getur kannski ...
Aðalsteinn Stefánsson (sjálfur)
12. Febrúar 2010
...Raunar ættum við að gera meiri kröfur til fulltrúa háskólasamfélagsins, krefjast aukinnar gagnrýni af hálfu prófessora og vísindamanna. Við eigum ekki að leyfa okkur að láta kyrrt liggja þegar prófessorar fara með fleipur í útlöndum. Fyrir fjórum mánuðum var viðtal við hagfræðiprófessorinn Þórólf Mattíasson í norsku blaði. Prófessorinn gengur í viðtalinu hart fram í að sannfæra lesendur norska blaðsins um að þjóðin verði að gera upp skuld bankanna við Hollendinga og Breta: „Prófessorinn dregur upp alvarlegar afleiðingar þess ef samningur er ekki kominn á áður en löndin krefjast þess að fá greitt í haust. - Við gætum séð það fyrir okkur að flugvél frá Icelandair yrði gerð upptæk á Heathrow flugvellinum." sagði hagfræðiprófessorinn fyrir ...
Jóna Guðrún
11. Febrúar 2010

...Hávaxtastefna Seðlabankans eru hans stærstu mistök að mínu mati þótt ég taki undir með Eiríki Jónssyni að lánveitingar með veði í „ástarbréfum" bankanna höfðu að sjálfsögðu alvarlegar og afdrifaríkar afleiðingar. Þau ber hins vegar að skoða í framangreindu sögulegu samhengi. Aldrei hefur nokkur vafi leikið á því að íslenska ríkið greiddi sínar skuldir. ALDREI. Seðlabankinn er hluti af íslenska ríkinu. Það var Landsbankinn hf hins vegar ekki. Þess vegna á ekki að leggja Seðlabankann og Landsbankann að jöfnu! Alls ekki. Deilan stendur um að hvaða marki ...
11. Febrúar 2010
Ég hef skrifað þér nokkrum sinnum tölvupóst, en aldrei sent hann til heimasíðu þinnar. Ég hef fjallað um skoðun mína á ICESAVE og aðkomu þína að því máli. Það liggur fyrir að við erum algjörlega á öndverðum meiði þar og framtíðin ein getur skorið úr um hvor hefur rétt fyrir sér í þeim efnum. Mig langar hins vegar að biðja þig að taka fyrir gjaldþrot Seðlabankans á síðunni þinni og fjalla um og reikna út hvað „ástarbréf" og „lánveitingar" hans fram að hruni og gjaldþrot hans í framhaldinu koma til með að kosta þjóðarbúið og bera það saman við væntanlegan kostnaðinn af ICESAVE. Mér finnst oft gleymast að ....
Eiríkur Jónsson
11. Febrúar 2010

Það er svolítið sérstakt hvernig Þórólfur Matthíasson, háskólaprófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, umgengst sannleikann. Í Fréttablaðinu í dag birtist grein eftir Þórólf, sem lesendum blaðsins, er sagt vera svar við skrifum mínum um röksemdafærslu prófessorsins.
Ég ætla ekki að efast um að þessi grein sé meint sem einhvers konar svar þótt hún í raun sé það ekki. Mér eru gerðar upp skoðanir sem ég alls ekki hef og látið er að því liggja að ég fullyrði sitthvað sem ég alls ekki hef gert. Þannig segir Þórólfur Matthíasson svo dæmi sé tekið...
11. Febrúar 2010
...En mín vegna má Pétur ríða áfram á hnakklausu og óbeislaðu ekótrippi því ég held að enginn hafi lengur áhuga á málflutningi hans í Icesave-málinu. Ekki einu sinni flokkshestarnir í VG og Samfylkingunni. Icesave-málið er komið í nýjan farveg. Þó Pétri sé ekkert um það gefið held ég að honum væri eflaust greiði gerður að VG losaði hann við ekótrippið og gæfi honum nýjan og betri hest með öllu tilheyrandi. Það er nefnilega ósköp dapurt að sjá þennan ágæta flokksbróður ráðast á þá þingmenn flokksins sem hafa sýnt hvað mestan áhuga á kjörum almennings við þær erfiðu aðstæður sem nú blasa við. Ég er viss um að...
Helga Þorsteinsdóttir
11. Febrúar 2010
Ögmundur er einn af sterkustu leiðtogum félagshyggjufólks. Hvet stuðningsfólk Ögmundar að taka þátt í þrýstihópnum "Hagar samvinnufélag" Markmiðið er lýðræðislegt samvinnufélag neytenda um rekstur Haga. Sjá...
Hallur Magnússon
11. Febrúar 2010
Sæll Ögmundur, Ég þakka þér fyrir öflugan og skyran málfutning í genum tíðina og þá sérstaklega varðandi Íraksstríðið og vona ég að það verði sett upp rannsókn á því. Aftur á móti þá skil ég ekki alveg reiði þína út af Samskipum og Ólafi Ólafssyni. Ég fæ ekki betur séð en ekki sé verið að fella niður neinar skuldir og að hann komi til með að borga öll þau lán sem tengjast félaginu. Ég hélt einmitt að það væri ...
Stefán
10. Febrúar 2010
Sæll Ögmundur - ég er ekki hissa á að þú sért hissa yfir rausnarlegum forgjöfum til hrunverja. Kannske kemst Magnús Eiríksson nálægt kjarna málsins í þessum orðum úr Þjóðarskútunni af disknum Von sem kom út liðið vor með okkur Mannakornum. Ef þú vilt vera þjófur, skaltu hlusta vel á mig. Steldu nógu miklu og þá semja þeir við þig. Þeir sem stela litlu skilja ekki baun, í hvernig kerfið virkar, og að lokum lenda inná Litla-Hraun...
Pálmi Gunnarsson
10. Febrúar 2010
Sæll Ögmundur, varðandi pistilinn þinn: NÍÐSKRIF Í NOREGI. Ég kom inn í síðuna þína til að skrifa um akkúrat það og sá að þú hafði tekið á þessu sjálfur í pistlinum, mun harðar en í Morgunblaðinu. Og fannst þú of vægur þar, þó ég skilji það nú. ...Hvað vakir fyrir fólki sem vill leggjast svo lágt að bara sættast á ólöglega kúgun og gera börnin okkar að skuldaþrælum að ósekju?
ElleE
10. Febrúar 2010
Heill og sæll Ögmundur og ég tek undir með fleirum að þú ert að standa þig virkilega vel og því segjum við: Áfram Ögmundur! En víkjum þá að þeim sem ekki eru að standa sig, því í skjóli núverandi ríkisstjórnar er stóriðja heims-kapítalistanna að skauta með skít-léttum leik yfir skinhelgi ráðherra hennar. Vinstri hvað? Grænt hvað? Samfylking um hvað? Hér á augljóslega að fara í tröllatökin, "monsterin", að vald-boði AGS. Ég hef alltaf verið talsmaður þess að margt .....Fyrst við fengum ekki 63-0, þá verður þjóðin öll, að segja og kjósa 100% NEI!
Pétur Örn Björnsson
9. Febrúar 2010

...Steingrími Hermannssyni kynntist ég nokkuð á vettvangi þjóðmálabaráttu, í átökum um húsnæðismál á 9. áratugnum og síðar sem formaður BSRB. Bar ég virðingu fyrir Steingrími og kunni vel að meta hans félagslegu viðhorf sem voru þungamiðjan í pólitík hans. Hann hafði hugrekki til að bera sem meðal annars kom fram í framgöngu hans á alþjóðavettvangi þar sem hann til dæmis studdi málstað Palestínumanna á afdráttarlausari hátt en aðrar Norðurlandaþjóðir á þeim tíma. Með okkur Steingrími Hermannssyni tókst ágætur kunningsskapur sem einkenndist af mikilli vinsemd. Minningin um Steingrím Hermannsson er í mínum huga...
9. Febrúar 2010

...Hvernig má það vera að Ólafur Ólafsson sem kenndur var við Samskip og lagðist síðan í milljarða brask og útrás er aftur kominn með eignarhald á Samskipum? Hefur hann gert upp sínar skuldir? Er hann laus allra mála gagnvart samfélaginu? Finnst honum sjálfum hann vera laus allra mála fyrr en hann er búinn að gera upp við íslenskt samfélag? Þannig mætti spyrja um fleiri. Marga fleiri. Reyndar flesta spilarana í fjárhættuspilinu um Ísland. Skyldi Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka vera að fara að fyrirmælum eigenda bankans þegar hann segir að gamlir eigendur Haga eigi að fá 15% hlut í fyrirtækinu í forgjöf áður en það fer á markað? Skyldi það vera þetta sem eigendurnir vilja? Hverjir eru annars eigendurnir? Getur verið að ...
8. Febrúar 2010

...Þetta mun því miður ekki vera grín. Það er í alvöru áhugi á því að opna myndarlegt spilavíti á Hótel Nordica! Einhvers staðar heyrði ég talað um Heilsuverndarstöðina gömlu sem tilvalin húsakynni fyrir spilavíti! Þetta er ekki grín þrátt fyrir að allir viti að Ísland hrundi vegna þess að landið var gert að spilavíti í öllum myndgervingum þess hugtaks. Andi spilavítisins sveif hér yfir vötnum og hafði áhrif á allt þjóðlífið í orðum og gjörðum. Ekki var nóg með að landið væri gert að vettvangi spilafíknar og hún örvuð á alla lund, heldur hefur komið á daginn að land og þjóð voru gerð að panti í spilarúlettu heimsins. Nú segjast þau hjá Icelandair vilja ...
8. Febrúar 2010
Pétur Tyrfingsson sá mæti sérfræðingur um spilafíkn (og alkóhólisma) áætlar að hér á landi séu um 1.000 spilafíklar. Það er um 1-2% þeirra sem leggja undir í fjárhættuspili. Þú vilt semsé loka allri spilastarfsemi, sem er afþreying fyrir hin 99%, vegna vandamála þeirra þessara eins til tveggja prósenta. Og heldur virkilega að þar með verði enginn spilafíkill lengur á Íslandi? Alkóhólismi er margfalt útbreiddari en spilafíkn. SÁÁ telur að rúm 10% fullorðinna glími við ...
Halldór Á.
6. Febrúar 2010
Nú les ég á síðunni hjá þér að afstaða Lilju Mósesdóttur og þín í Icesavemálinu geri ríkisstjórnina, hina „annars ágætu ríkisstjórn", óstarfhæfa. Þetta mælir Pétur, maður sem mér finnst vera holdtekja dætra heimskunnar, maður svo hræddur um sig, ríkisstjórnina og Icesave, að æðar pipra í hörundi hans sakir hræðslu. Icesavemálið virðist villa Pétri svo sýn að hann veit varla á hvers vegum hann gengur. Eini fasti punkturinn eru hin síð-sovésku viðhorf sem felast meðal annars í að telja sig vita betur, að vilja ákveða fyrir aðra og þetta, að vera bærastur til að taka ákvörðun, einkum fyrir aðra. Ég velti stundum fyrir mér hvaðan ...
Ólína
6. Febrúar 2010
...Hins vegar er sök, ábyrgð og heimska Ögmundar Jónassonar og Lilju Mósesdóttur mikil. Þau láta að því liggja að þau styðji ríkisstjórnina en róa öllum árum, með hrunverjum, eins og staðreyndirnar sýna, gegn hag Íslands, gegn endurreisn lands og endurbætts siðferðis. Þau vilja halda áfram að gambla með útrásarfólkinu. Á meðan blæðir þjóðinni, opinberir starfsmenn sem annað vinnufært fólk missir atvinnu sína í stórum stíl, barnafjölskyldur missa heimili sín og fjölskyldur flosna upp...
Pétur
6. Febrúar 2010
Hver er meining Þórólfs Matthíassonar að skrifa slíka grein í erlent fréttablað ? Ekki virðist þetta vera viðtal þar sem fréttamaður hefur samband og biður um skoðun hans heldur aðsend grein, send af einhverjum torkennilegum hvötum. Er hann að fá birta fræðigrein eftir sig sem fræðimann og prófessor í hagfræði? Við vitum jú að háskólamenn fá punkta, og þarmeð smá aukasposlu fyrir birtar fræðigreinar, en ekki get ég séð að þetta sé fræðigrein því ef hún ...
Aðalstein Stefánsson
6. Febrúar 2010
Nú stendur þjóðin frammi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu Icesave-samnigsins og allt stefnir í að honum verði hafnað með miklum meirihluta....Það sem ég vildi sjá er að þú, sem hefur mikið traust meðal þjóðarinnar og þykir maður orða þinna og þekktur fyrir að standa með almennum borgara, segir þig úr VG og gangir til liðs við Borgarahreyfinguna. Það mundi styrkja hana verulega, ekki síst ef...
Aðalsteinn
6. Febrúar 2010
Þú Ögmundur og Lilja Mósesdóttir greidduð atkvæði gegn lögunum um ríkisábyrgð. Það fer ekki á milli mála að afstaða ykkar almennt í þessari ríkisstjórn gera hana meira og minna óstarfhæfa. Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir þá sem fylgja þér að málum og eins fyrir hina að fá að vita hvað þú vilt gera í Icesavemálinu. Um hvað verður kosið. Hver eru markmið þín? Þú skuldar svar við spurningunni...
Pétur
6. Febrúar 2010
Birtist í Morgunblaðinu 5.2.10

Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, skrifaði grein í norska stórblaðið Aftenposten, sem vakið hefur athygli. Ég, á meðal annarra, hef gagnrýnt skrif Þórólfs harðlega. Hann hefur brugðist við gagnrýni minni, m.a. á vefmiðlinum Pressunni. Heldur hann sig við sama heygarðshorn og í Aftenposten þar sem hann gerir því skóna að gagnrýnendur Icesave-samningsins hér á landi fari með ósannindi og máli skrattann á vegginn.
5. Febrúar 2010
Í des.2007 vakti athygli mína spillingarsamningur þáv. menntamálaráðherra við Samson Properties, en þá lofaði hún með ríkisábyrgð að greiða fyrir lóðabraski fyrirtækisins við Laugaveginn, á Frakkstígsreit, borga kostnað við leigukassasmíði. Milljarðasamningur var gerður til rekstarleigu á óbyggðu einkahúsi braskaranna til Listaháskólans, 14.000 fm. ferlíki í þröngu, grónu, miðborgarumhverfi. Að auki fékk einkafyrirtækið að gjöf verðmætt ríkisland í Vatnsmýri(!). Ríkisgjöfin til braskfyrirtækis Björgólfs var metin á nálega 6 milljarða. Samson átti að verða borgið í bili. Ríkisgjöfin var ,,utan ríkisreiknings"...Aðrar sögur eru enn í smíðum. Þær væru hættulegar börnum , en skapandi höfundar finnast sem skapa barnslega fegurð úr vondum veruleika. Á Íslandi ríkir réttsýni, skynsemi, heiðarleiki, segja þeir. Eigum við sjálf að...
4. Febrúar 2010
Í samhengi þess sem þú ritar um afstöðu Þórólfs Matthíassonar í norskum blöðum þá er vert að rifja upp ummæli hans frá því snemmsumars 2009 þar sem hann minnti þá sem ekki vildu gera upp kröfur vegna Icesace að þeir myndu fljótt komast á stall með Norður Kóreu og Kúbu ef þeir væru ekki stilltir. Í huga Þórólfs var Icesave skuldbindingin smávægilegt vandamál í samhengi væntanlegra refsiaðgerða og einangrunar þjóðarinnar. Hin mesta bölvun skapast af því að taka ekki við láni á þeim kjörum sem okkur voru fyrst rétt. Ef við tókum ekki þessu ágæta boði Breta og Hollendinga segir Þórólfur að við ...
Árni V.
4. Febrúar 2010

...Tilefni þessara skrifa er að í kvöld voru tónleikarnir fluttir í Ríkisútvarpinu þannig að þeim sem ekki sóttu tónleikana 27. janúar sl. gafst þar færi á að heyra snilldartakta tónlistarmannsins. Í sýningarskrá er greint frá glæsilegum námsferli Ögmundar þórs Jóhannessonar á Íslandi, Spáni og loks í Austurríki en hann útskrifaðist með hæstu einkunn frá hinum heimskunna Mozarteum skóla í júní árið 2008. Núna starfar Ögmundur þór sem tónlistarmaður í Berlín. Til marks um færni hans segir meðal annars um verkið Toccata eftir Þorstein Hauksson í sýningarskrá...
3. Febrúar 2010

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mætti í Kastljós Sjónvarpsins í kvöld. Margt var skrafað. En þar kom að spurt var um forgangsröðun Sjálfstæðismanna. Hvað myndir þú gera, spurði Helgi Seljan Kastljósmaður, ef þú yrðir forsætisráðherra. Bjarni sagði að nauðsynlegt væri að byggja á víðtækri sátt um þá stefnu sem fylgja ætti. Sættir yrðu að takast við hagsmunaðila. Þetta sagði formaðurinn, eða á þessa leið. Nú beið ég spenntur, skyldi hann telja upp hagsmunaaðilana sem tala þyrfti við, kannski byrja á því að nefna Öryrkjabandalagið, svo Hagsmunasamtök heimilanna, BSRB, Náttúruverndarsamtökin... Nei, fyrstir inná samráðspallinn hjá Bjarna Benediktssyni átti að vera ...
3. Febrúar 2010
Í mínum huga og í hugum flestra er það nú augljóst að Þórólfur Matthíasson, málsvari Samfylkingarinnar og Steingríms í efnahagsmálum og "trúboði" heims-kapitalismans á RÚV er nú kominn af fullum ásetningi í hlutverk "economic hitman" fyrir heims-kapítalismann. Hann beitir sér markvisst gegn ...
Pétur Örn Björnsson
3. Febrúar 2010
Ég hef áhyggjur af því að öll umræða um Icesave, sem þó er ágæt, valdi því að ekki sé tekið eftir því að ráðist sé harkalega að velferðarkerfinu, suðvesturlína fær stimpil frá ráðuneytinu og ríkisútvarpið sýnir eurovision sem innlent efni. Kannski er það rétt sem Sigmundur Davíð sagði að þessi ríkisstjórn getur bara gert einn hlut í einu. Ef það er rétt þá er það hræðilegt að þetta Icesave hafi tekið svona langan tíma og þá er baráttan fyrir lítið. Hvað finnst þér Ögmundur um niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu? Skiptir það bara engu máli að ...
Starfsmaður á Landspítala
3. Febrúar 2010

...En hvers vegna yrði það Íslendingum dýrt, má ég spyrja? Svarið liggur í augum uppi. Vegna þess að þá yrðu Íslendingar væntanlega beittir þvingunaraðgerðum af hálfu Breta og Hollendinga og fylgisfiska þeirra! Er ekki rétt fyrir Íslending sem hefur fyrir því að skrifa grein í erlent blað að spyrja um réttmæti slíkra refsiaðgerða og í framhaldinu, ef þær reynast óréttmætar, fara þess á leit að látið verði af slíkum þvingunum? Nei, það er ekki á dagskrá hjá Þórólfi Matthíassyni. Grímulaust og gagnrýnislaust tekur hann upp málstað Breta og Hollendinga og grefur um leið undan okkar málstað og ber okkur sum hver út að auki! Um útreikninga og framsetningu Þórólfs má ...
2. Febrúar 2010

...Ánægjulegt er að heyra þá tóna sem nú heyrast frá norrænum vinstri flokkum, svokölluðum systurflokkum VG á Norðurlöndum. Í síðustu viku kom allfjölmenn sveit frá þessum flokkum saman til reglubundins samráðsfundar í Kaupmannahöfn. Af Íslands hálfu gerðu þingmenn VG, þau Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingflokksformaður og Ásmundur Einar Daðason, grein fyrir stöðu Icesave málsins. Sama gerði Elvira Méndes prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, sem sérstaklega hafði verið boðið til fundarins til að fara yfir lagalegar hliðar málsins.
Í kjölfar fundarins var...
2. Febrúar 2010
Ég hef stundum sagt frá því að þegar ég lá við gráturnar í Hrepphólakirkju og horfði í austur þegar ég var fermdur þá hafi ég séð ljósið,síðan þá hef ég talið mig vera vinstri mann. Þegar VG var stofnað og búið að leggja niður Alþýðubandalagið þá ákvað ég að styðja VG og hef gert það síðan. Ástæða þessa formála er sú að ég hef verið að lesa þær ályktanir sem samþykktar voru á Akureyri eða kannski það sem var ekki rætt eða gerðar ályktanir um. Það sem mér finnst vanta eru ...
Viðar Mgnússon
1. Febrúar 2010
„Það les enginn slíkan texta svo vel sé nema sálin sé með í leiknum", sagði Gunnar Stefánsson, útvarpsmaðurinn góðkunni í inngangsorðum sínum að Passíusálmalestri Andrésar Björnssonar í kvöld. Þar með hófst lestur Passíusálmanna sem mun standa næstu 9 vikurnar eins og 66 ára hefð er nú komin á að gera í Ríkisútvarpinu á föstunni, eða allar götur frá árinu 1944...Andrés Björnsson var ekki aðeins frábær upplesari. Hann var menningarinnar maður. Á tímum sem okkar er gott að finna til kjölfestunnar í menningunni. Þar hefur Ríkisútvarpið skyldum að gegna...
1. Febrúar 2010

...En það er hraðupphlaup Sigurjóns M. Egilssonar á Sprengisandi sem er tilefni þessara skrifa minna. Þátturinn sem fjallaði um hrunið og aðdraganda þess var einstaklega vel unninn - af vandvirkni og skilningi. Sigurjón fór í gegnum gögn opinberra aðila, Seðlabankans og fleiri, og ræddi við valinkunna einstaklinga. Af handahófi kemur upp í hugann ábending Þórðar Friðjónssonar Kauphallarforstjóra um að í árslok 2007 hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagt að ...
1. Febrúar 2010
Pétur heldur áfram að ausa yfir þig óhreinindum hér í lesendahorninu, nú síðast undir fyrirsögninni „Alvöruumskipti." Verst þykir mér að þarna er flokksbróðir á ferð og segir það sitt um ástandið innan VG. Þar hafa ýmsir, og þ. á m. Pétur og félagar, gleymt því sem dregið hefur fjölda fólks að hreyfingunni í gegnum tíðina - sem sagt því grundvallaratriði að beita ekki þeim einræðis-aðferðum við stjórn landsins sem ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins hafa gert. Þar á bæ var vondum málum einfaldlega troðið ofan í kokið á stjórnarmeirihlutanum á Alþingi með góðu eða illu. VG hefur hingað til lagt áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð og skoðanafrelsi...
Helga Þorsteinsdóttir
1. Febrúar 2010
Þó að ég sé hlutlaus gagnvart seðlabankastjóra, finnst mér ekkert að því að hann bendi á samhengi hlutana, án þess að það verði talið að hann blandi sér í pólitik. Svo finnst mér ekkert að því að ríkið tryggi það sparifé sem almenningi hefur tekist að nurla saman kannski alla ...
Andrés Adolfsson
31. Janúar 2010

Flestir sem verða á mínum vegi þessa dagana gleðjast yfir því að möguleikar kunni að opnast á endurupptöku Icesave samninganna. Úrtölufólk er líka til en því fer fækkandi. Sem betur fer. Ég heyri á félögum mínum og vinum sem ég er í samskiptum við innan verkalýðshreyfingarinnar á Norðurlöndum og á vettvangi Evrópusambandsins, að nú blási ferskari vindar og okkur hagstæðari en verið hefur fram til þessa...Tvær konur hafa verið skeleggar í þessu efni síðustu dagana, þær Eva Joly og Lilja Mósesdóttir. Norrænir þingmenn óskuðu eftir því að Eva Joly gerði grein fyrir sinni sýn á Icesave málið fyrir hálfri annarri viku. Sá fundur muna hafa verið...
31. Janúar 2010

Ekkert jafnast á við Ísland í góðu skapi. Þannig finnst mér landið vera þegar veður er fallegt, stilla og heiðríkja. Þannig er það búið að vera um helgina á þeim slóðum þar sem við Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, fórum um , en það var sem leið liggur um landið vestanvert og norður í Skagafjörð þar sem ég var gestur á félagsfundi Vinstri grænna... Eitt er víst. Meningarvísitalan er ekki á niðurleið við Skagafjörð. Um miðnættið risum við Jón Bjarnason úr sætum okkar til að hefja heimferðina. Ég hafði orð á því við nærstaddan eftir hálftíma eða svo að ráðherrann þyrfti að kveðja marga. Viðkomandi svaraði að bragði ...
31. Janúar 2010
Algjörlega ósammála þér um ferðina til Haag og framgöngu forsetans. Að ein ríkasta þjóð heims fari enn einu sinni að betla meiri afslátt á skuldum sínum er ekki stórmannlegt. Að forsetinn sé með ómálefnalegt væl á alþjóðavettvangi um einelti segir meir um málefnalega stöðu hans en eðlilega kröfu Hollendinga og Bretu um að við stöndum við margyfirlýstar skuldbindingar okkar. Sem okkur ber ....
Ólafur Guðmundsson
29. Janúar 2010

...Okkar menn voru á ferð í umboði allra stjórnmálaflokka á Alþingi, líka Samfylkingar og Hreyfingarinnar. Þetta er mikilvægt að hafa í huga enda eina leiðin fyrir Ísland að landa árangri er að við STÖNDUM ÖLL SAMAN um málstað Íslands. Þarna var verið að opna á viðræður sem þarf að fylgja eftir. Nú má enginn skerast úr leik. Við þurfum að ná landi saman. Jafnframt þurfa allir að leggjast á eitt um að vinna að því að bæta stöðu okkar. Sýna fram á ofbeldið sem Ísland hefur verið beitt af hálfu Breta, Hollendinga, ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Forseti Íslands hefur ekki látið sitt eftir liggja. Hafi hann þökk fyrir skelegga framgöngu, sbr..
28. Janúar 2010

...En hvað sem brotum og brotalömum viðkemur þá má hitt aldrei gleymast að hrunið varð ekki til af sjálfu sér. Spilavítið Ísland var búið til með markvissum og yfirveguðum hætti. Þau áttu sér draum sem þau vildu gera að veruleika! Ísland sem paradís fyrir fjármálabrask. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ættu að hafa þetta í huga þegar þeir mæta sperrtir í umræðuþætti að óskapast yfir böli heimsins. Annars stoðar lítt að festast í fortíðinni nema að því leyti að af henni eigum við að draga lærdóma til að flytja með okkur inn í framtíðina...
28. Janúar 2010
Að falla á prófi: Góð grein og hjartanlega sammála. Óþolandi að Seðlabankinn sé í pólitík og noti ekki tækifærið sem felst í sjálfstæðum gjaldmiðli betur ...
Jón Helgi Egilsson
28. Janúar 2010
...Það er drepið á mörgu góðu á vefsíðunni þinni, en innámilli eru furðuleg skrif manna sem ráðast á þig af illsku, útúrsnúningi og málefnalausum persónuárásum, sem virðast oftar en ekki koma frá atvinnupennum forustu núverandi ríkisstjórnar. Ég er sammála Sigríði S. Einarsdóttur að framferði ríkisstjórnarinnar kallar á fall hennar og fólki gefið tækifæri til að velja sér fulltrúa á Alþingi á ný. Núverandi ríkisstjórn situr á alröngum forsendum, sem gerir forkosningarloforð þeirra sem sitja...
Helgi
28. Janúar 2010
...Enda tel ég að nú sé rétti tíminn til að ganga á lagið og draga allan okkar málstað uppá yfirborðið meðan við höfum meðbyr erlendis frá og áður en málið sofnar og gleymist. Og sérstaklega nú þegar dómur hefur fallið í Bretlandi um ólögmæti þess að frysta eigur hryðjuverkamanna, þá væntanlega þámt okkar. Enda held ég, þegar grannt verður skoðað, að það eitt að setja hryðjuverkalög á heila þjóð samsvari stríðsyfirlýsingu og ættum við þá jafnvel rétt á stríðsskaðabótum af hendi Breta fyrir það tjón sem við urðum fyrir í kjölfarið. En, áfram Ögmundur, þú ert að standa þig !!
Aðalsteinn Stefánsson
28. Janúar 2010
síðustu kosningum fengum við alvöruumskipti á Alþingi. Þjóðarhreyfingin vann stórsigur og fékk 4 þingmenn kjörna beint úr grasrótinni. Eftir að meirihluti Þjóðarhreyfingarinnar hafði snúið flestum kosningaloforðum sínum á haus tók hann að hreinsa til í eigin flokki. Minni hlutinn, sem hafði viljað standa við kosningaloforðin, var lagður í einelti og sendur á "geðveikrahæli", gerður að samviskufanga. Að þessu loknu bundust þessir fulltrúar búsáhaldabyltingarinnar höndum við hrunverja og Ögmundarklanið með það eina markmið að fella annars ágæta ríkisstjórn. Hrunverjar verða að komast í ríkisstjórn til að ...
Pétur
28. Janúar 2010
Fyrir nokkru birtist bréf á heimasíðunni þinni sem situr í mér og ég hef farið að hugsa um af meiri og meiri alvöru. Það var greinilega var frá einhverjum afturhaldskalli í VG sem vildi kosningar strax til að fá tækifæri til að hreinsa þig og samherja þína út úr VG í prófkjöri. Hann var ómyrkur í máli og vandaði ykkur ekki kveðjurnar. Eftir því sem ég hugsa þetta meira finnst mér það vera fín hugmynd að fá kosningar og prófkjör. Ég er nú ekki alveg viss um að niðurstaðan yrði sú sem kallinn óskaði eftir. Satt best að segja ...
Sigríður S. Einarsdóttir
27. Janúar 2010
Mér var bent á grein sem þú skrifar hér þann 21. jan s.l. Mér blöskrar við að lesa þessi skrif þín. Auðvitað á að sækja fólk til saka sem brýtur af sér, burt séð frá "ástandinu" í þjóðfélaginu. Það var ráðist á fólk sem var að verja þig og samstarfsmenn þína á Alþingi. Mér þykir þú sýna þessu fólki vanvirðingu fyrir sín störf. Ef þessir ofbeldismenn kæmust upp með að vera ákærðir þá er þar með verið að gefa það út að það megi ráðast á öryggisverði, lögreglu og aðra þá sem standa vörð um þingið...
Agnar
27. Janúar 2010

...Þessa breyttu stöðu ber okkur öllum skylda til að nýta, málstað Íslands til framdráttar. Ekki tala okkur niður. Ekki leita að því sem er til þess fallið að veikja stöðu Íslands. Heldur hinu sem er til að styrkja stöðu landsins. Lágmarkskrafa er að Seðlabankinn haldi sig til hlés ef hann ekki telur sig vera þess umkominn að horfa hlutlægt á málin.Sama á við um akademíuna. Venjulega eru það nemendur sem falla á prófum. Á undanförnum mánuðum höfum við hins vegar séð prófessorana falla. Hvern á fætur öðrum...
26. Janúar 2010
Birtist í Fréttablaðinu 25.01.10.

Niðurskurðurinn í ríkisútgjöldum er farinn að segja til sín. Ýmsir staðhæfa að við séum að fara í hundana. Að Ísland muni einangrast ef við förum ekki í einu og öllu að vilja Breta og Hollendinga. En vanmetum ekki stöðu okkar. Kapítalisminn er ágengari en margir halda; túristinn frá München ætlar til Íslands í sumar hvað sem tautar og raular; Ikea ætlar að selja Jóni og Gunnu á Íslandi stól og borð -fiskkaupmaðurinn í Grimsby ætlar að koma íslenskum fisk á veitingahúsaborð í London. Hann ætlar ekki að einangra Ísland. Vanmetum ekki heldur ...
26. Janúar 2010
Birtist í DV 25.01.10.

Einhvern veginn finnst mér að lesendur DV eigi annað og betra skilið í umfjöllun um Icesave en greinar blaðamannanna Jóhanns Haukssonar og Vals Gunnarssonar á undanförnum vikum. Í stað málefnalegrar greiningar eru endalausir palladómar um einstaklinga og stjórnmálaflokka. Innihaldsrýrir, en þeim mun rætnari. Sjálfur hef ég fengið vel útilátna skammta...Hvernig væri nú til tilbreytingar að reyna sig við málefnalega umræðu um Icesave og alla vega gera tilraun til að ...
26. Janúar 2010

...Gott er að finna fyrir stuðningi Kristins H. Gunnarssonar hvað þetta varðar en fyrir þinginu liggur beiðni frá mér og fleirum um að öll gögn í þessu máli verði gerð opinber og upplýst um það niður í kjölinn. Þingsályktunartillagan er svohljóðandi:
"Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra og utanríkisráðherra að sjá til þess að birt verði öll skjöl og allar aðrar upplýsingar sem fyrir liggja frá ársbyrjun 2002 til desember 2003 sem varpa ljósi á ákvörðun þáverandi ríkisstjórnar um stuðning Íslands við innrás Bandaríkjamanna og Breta og annarra þjóða í Írak árið 2003." ...Sjá hér nánar umfjöllun mína um þetta efni frá því í desember...
24. Janúar 2010
Enn ein frétt sem staðfestir að Evran er ekki einföld lausn til alsælu á sviði efnahagsmála....
Karl Johannsson
24. Janúar 2010
...Í og með skrifa ég þetta bréf mitt með vísan til myndar Gunnars Sigurðssonar, "Maybe I should have". Mér hefur lengi verið hugleikin frábær grein, sem Guðbergur Bergsson, rithöfundur, skrifaði fyrir um 30 árum "Mörg er treyjan" og mig minnir að hafi birst í Þjóðviljanum. Þar varaði hann mjög við evrópu-kratismanum, sem þá var í fæðingu. Margir hlustuðu, en flestir þeirra vildu alls ekki heyra. Í greininni fjallar Guðbergur um innantóma froðu evrópu-kratismans, glansmyndina, sem væri uppdiktuð af valdagírugum mönnum til þess eins að fela og þar með forðast allar valda-afstæður. Við sjáum hvað hann hafði rétt fyrir sér, nú 30 árum seinna. Enn er ...
Pétur Örn Björnsson
23. Janúar 2010
Ég kaus VG í síðustu kosningum og kosningunum þar á undan einnig. Nú er ég með efasemdir um framhaldið. Það er svoldið skondið að þið sem mér finnst vera mest yfirveguð og jarðbundin í þingflokknum, í bestum tengslum við grasrótina og ástundið lýðræðisleg og gagnsæ vinnubrögð, skuluð vera kölluð "órólega deildin" í VG! Ég er rólegastur gagnvart ykkur og vildi helst sjá ykkur í flokki án þeirra sem sögð eru svo róleg. Slíkan flokk myndi ég kjósa og veit að svo er um marga - ekki bara í ...
Jóhannes Jónsson
22. Janúar 2010
...Mér virðist það vera einbeittur vilji Steingríms að kljúfa frekar flokkinn, en leita sátta. Kannski hann dreymi um að verða formaður Samfylkingarinnar? Samfylkingin er sérhagsmuna-tengdur ný-frjálshyggjuflokkur í anda evrópu-kratisma Blairs og co. Meðan ýmsir forustumenn VG dansa með þeim trylltan dans og drekka stöðugt úr kaleik þeirra með kink á kolli, þá verður okkur mörgum það að spurn, hvort Steingrímur sé ekki orðinn svo blindur og drukkinn af kinki sínu með Samfylkingunni að hann ætti frekar heima þar innanbúðar í koju?
Pétur Örn Björnsson
22. Janúar 2010
Þér ætti að vera kunnugt um það að embættið sem þú tókst þátt í að setja á koppinn hefur yfirheyrt bankamenn í tugavís auk fleiri aðila og á eftir að yfirheyra fjöldann allann í viðbót. Ákærur í einföldustu málunum eru í undirbúningi. Þetta veit háttvirtur þingmaður. Flækjustigið í máli þessa fólks sem réðist með ofbeldi á vinnustað þinn, er nú talsvert minna en í hrunsmálum þeim sem eru til rannsóknar. Endurskoðendur og lögfræðingar á snærum bankamannanna sjálfra höfðu nægan tíma til þess að ...
Runólfur
22. Janúar 2010

Íslendingar berja sér á brjóst fyrir viðbraðgsflýti við hjálparbeiðni frá Haiti vegna hörmunganna í kjölfar jarðskjálfta. Ég tek þátt í brjóstkassabarsmíð. Ég er stoltur að hugsa til þess að Íslendingar voru í hópi þeirra sem voru fyrstir að taka við sér þegar ógæfan reið yfir. Mér þykir líka vænt um að lesa frásagnir af því hve vel okkar fólk hefur staðið sig í björgunarstarfi við erfiðar aðstæður. Þakkir til allra hlutaðeigandi, viðbragðsskjóts utanríkisráðuneytis, björgunarsveita, hjálparstofnana...Fáum þar auk þess ágætan og sannsöglan spegil á eigið hlutskipti. Hollt fyrir okkur - um leið og við ...
21. Janúar 2010

...Þegar skrifstofustjórn Alþingis tók ákvörðun um kærur með kröfum um refsingar og fangelsisdóma síðastliðið haust mótmælti ég. Taldi þetta ósanngjarnt, óráðlegt, nánast heimskulegt. Við yrðum að horfa á aðstæður. Spyrja, hvers vegna allur þessi hugaræsingur og ofsi? Svörin blöstu við. Á þessum tíma var það að renna upp fyrir fólki að Ísland hafði verið svikið. Og blóðið ólgaði. Fólk greip til aðgerða sem það að jafnaði gerir ekki - og eru óafsakanlegar undir öllum venjulegum kringumstæðum. Svo leið tíminn. Flestir héldu að málið væri dautt. Slasað fólk hefði fengið bætur. Helst ríflegar. En viti menn. Nú reis "Réttvísin" úr rekkju. Steig framúr. En ekki sú réttvísi sem beðið var eftir.
Í þjóðfélaginu er nefnilega spurt...
21. Janúar 2010
Hvar er byltingin ? Að sparka í liggjandi mann þykir ekki manni sæmandi. Ekki nægir að gera skuldugar fjölskyldur gjaldþrota, heldur virðist skylda þeirra sem valdið hefur að fylgja eftir kjaftshögginu með sparki. Hvernig í veröldinni datt skrifstofustjóra Alþingis í hug að kæra mótmælendur sem réðust inn í Alþingishúsið. Liggja þeir ef til vill vel við höggi ? Hefur maðurinn enga dómgreind ? Hvar eru málsvarar skuldara ? Hvar eru kærurnar á hendur þeim sem lögðu landið í rúst ? Sýnum vígtennurnar og látum valdhafa vita af okkur en notum ekki ofbeldi til þess. Treysti þér ...
Skarphéðinn
20. Janúar 2010
Eitt skal ég viðurkenna, oft hef ég ekki verið sammála Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, en verð þó að viðurkenna, að síðasta útspil hans, með að senda björgunarsveit´, frá Íslandi, fyrstir allra þjóða, til Haiti, hefur aukið álit mitt á honum mikið. Auðvitað hefur hann ekki tekið þessa ákvörðun einn, ríkisstjórn Íslands, sem heild, hlýtur að hafa þurft að samþykkja þessa aðstoð. Eitt er víst, að þetta hefur orðið þess valdandi, að hróður Íslands vex, heimasíða norska ríkisútvarpsins og fleiri...
Friðjón Steinarsson
20. Janúar 2010
Þú talar alltaf beint frá mínu hjarta en orðar hlutina svo miklu betur. Það er nauðsynlegt að Íslendingar eigi sér málsvara. Það er hinum "stóru" þjóðum hollt að fá sannleikann beint í andlitið.
Skarphéðinn P. Óskarsson
20. Janúar 2010
Okkur vantar forustuman á Íslandi ert þú ekki maðurinn ???
Haukur Njálsson
20. Janúar 2010
Mikill fjöldi fólks út í heimi stendur með íslenskri alþýðu gegn fjármála krimmunum! Við fólkið, skuldum ekki Icesave þjófnaðinn! Lesið um hvað fólk erlendis skrifar...
Birgir Rúnar Sæmundsson
20. Janúar 2010
...Ég leyfi mér að benda þér á pistil minn með hugleiðingum um icesave og siðferði...
Hjörtur Hjartarson
20. Janúar 2010
Formleg, lögfest, ríkisábyrgð á innistæðum fólks í einkabönkum var óþekkt fyrir hrun. Síst af öllu var slík ríkisábyrgð hugsanleg þegar við- skiptabankar léku frjásir hlutverk fjárfestingafélaga og vogunarsjóða. Sjálfstæðir innistæðutryggingasjóðir báru ábyrgðina lagalega. Punktur. Á hitt ber þó að líta að úrkynjað og spillt fjármálakerfi er samfélagsskaðvaldur. Hrynji fjármálakerfi ríkis til grunna skaðar það alla þegna og varðar því samfélagsstjórnvöldin. Af þeim ástæðum ber hverju ríkisvaldi skylda til fyrirbyggjandi aðgerða, með aðhaldi og regluverki, t.d. til að sporna við fjárglæfrum banka og glæpaverkum. Ein aðferðin er að...
20. Janúar 2010

...Það er fólgin von í öllu því fólki sem er tilbúið að berjast fyrir betra Íslandi. Í þeirri baráttu dugir engin værukærð. Það þarf að hrista upp í íslensku þjóðfélagi. Sá er blindur sem ekki kemur auga á það. Við eigum enn eftir að losa okkur við hugsunarhátt útrásartímans; braskið og spillingin ríður enn húsum í fjármálaheiminum og víðar í atvinnulífi. Þessu útrýmum við ekki með löggjöf og reglugerðum einum saman heldur með því að breyta hugarfari í þjóðlífinu, tíðarandanum. Að því vill Gunnar Sigurðsson stuðla með mynd sinni....
19. Janúar 2010

...Ef við ætlum hins vegar að treysta á forræðishyggjuna -
"góðu" stjórnmálamennina - til að passa upp á okkur, og hættum að hugsa sjálf, þá erum við dæmd til að tapa. Bæði vegna þess að
"góðu" stjórnmálamennirnir eru ekki alltaf við völd og svo er hitt, að
"góðu" stjórnmálamennirnir geta stundum gert slæma hluti....Sannast sagna finnst mér stórundarlegt - og kemur mér á óvart hve djúpum rótum forræðishyggjustjórnmál virðast standa í íslenskri pólitík - sú hugmynd, að stjórnmál snúist um fagmennsku; kunnáttu á því að hafa vit fyrir öðrum...
19. Janúar 2010

...Á daginn hefur komið að dráttur á málinu gæti komið okkur vel, það er að segja, ef við nýtum þann byr sem við höfum erlendis og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að styrkja stöðu okkar með öflugu kynningarátaki. Ég var ekki einn um þessa skoðun. Svo mikil var óánægjan í þjóðfélaginu með niðurstöðu þingsins að fjórðungur atkvæðisbærra manna í landinu mæltist til þess við forseta Íslands að hann yrði við áskorunum um þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt stefnu VG hefði ekki þurft forsetann til sem millilið því samþykktir flokksins kveða á um að þetta hátt hlutfall kjósenda eigi að geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu milliliðalaust....
18. Janúar 2010
...Fyrst af öllu þá vil ég þakka þér Ögmundur fyrir að standa í fæturna fyrir þínum skoðunum. Sömuleiðis vildi ég senda inn athugasemd um atriði sem þú líklega veist nú þegar af. Orðið af götunni var það á sínum tíma að Geir H Haarde hafi notfært sér tengsl sín í Noregi til að fá þeirra aðstoð til að fjármagna enduruppbyggingu íslenska fjármálakerfisins. Norðmenn tóku víst vel í þá beiðni hans og allt virtist ætla að ganga upp þar til að skyndilega var klippt á viðræðurnar. Svíar komust að þessum viðræðum og þögguðu niður í Norðmönnunum. Af hverju? Sagan segir náttúrulega að sænsku bankarnir eigi mikinn pening undir í austantjaldslöndunum Eistlandi, Lettlandi og Litháen og að ef/þegar allt fer á...
Óskar
18. Janúar 2010
...Ég vil fyrst byrja á að þakka þér fyrir svör við ummælum Reinfeld forsætisráðherra Svía um að þeir hafi tekið að sér handrukkun því ummæli hans voru nákvæmlega þannig og ekki batnar að sjá á Bloomberg fréttaveitunni að við mætum kulda við að hrófla við samningunum frá Hollendingum og Bretum. Gott og vel látum þjóðina hafa síðasta orðið og hættum öllu þjarki við þá og þeir geta þá fengið Landsbankann eins og hann leggur sig eða farið í mál. Efta dómstóllinn telur Neyðarlögin standa svo að við þurfum ekki að kvíða því. Lífeyrissjóðirnir okkar eiga ...
Þór Gunnlaugsson
18. Janúar 2010
Frábært hjá þér að taka Fredrik Reinfeldt í nefið, þetta eru ekki vinir okkar. Ískendingar þurfa að koma þeim skilaboðum til Norðurlandaþjóðanna...
Ágúst Kr.
18. Janúar 2010
..Í grein í Fr.bl.14.jan.2010 skrifar Sigurður Líndal um Icesave málið. Hann undrast eins og flestir Íslendingar hvað valdi síendurtekinni yfirlýsingagleði "Norðurlandahöfðingja" um að "Íslendingar eigi að standa við skuldbindingar sínar" án þess þó að þeir útskýri af hverju. Og yfirlýsingagleði þeirra heldur enn áfram eftir að heimsókn SJS í herbúðir þeirra lauk. Í niðurlagsorðum greinarinnar óskar Sigurður því eftir útskýringum SJS: "Nú birtast á hverjum degi greinar og viðtöl við valinkunna menn sem halda því fram að engar eða í mesta lagi takmarkaðar skuldbindingar hvíli á Íslendingum til að...
Pétur Örn Björnsson
17. Janúar 2010
Þau eru ömurleg bréfin Péturs og Kristjóns á vefsíðu þinni. Báðir aðskilja þeir ekki þjóð og ríkisstjórn þegar um er að ræða Svía og hvorugir virðast skilja að það er djúp gjá á milli íslensku þjóðarinnar og íslenskra einstaklinga sem athafna sig í útlöndum og hafa stórskaðað íslensku þjóðina með lygum, þjófnaði og undirferlum. Jú, það má sannarlega kenna alþjóðasinnum, fjárglæfarmönnum, einkavinavæðingarsinnum og auðvaldsþjónum um óhamingju Íslendinga, en það má ekkert síður kenna núverandi stjórnvöldum um hryggileg afglöp í Iceslave málinu og endur-einkavæðingu bankanna og fjármálafyrirtækjanna ásamt sölu orkufyrirtækja ...
Helgi
17. Janúar 2010
Sæll, Þakka þér einarða afstöðu í Ísbjargarmálinu. Skyldi sænskur almenningur vita að sænsk stjórnvöld eru handrukkarar alþjóðlegrar fjáreigendaklíku? Fáir ef nokkur hefur komið oftar á Bildeberg-samkundur en Carl Bildt...
Ólafur Jónsson
17. Janúar 2010
Til að skilja til fullnustu,hvers vegna Bretar og Hollendingar eru svo grimmir gagnvart Íslendingum, er áhugavert að skoða þetta Webcast....Það sýnir í hnotskurn við hvað er verið að eiga fyrir Ísland í dag....
Birgir Rúnar Sæmundsson
17. Janúar 2010

... Annars vil ég sérstaklega vekja athygli á ítarlegu viðtali við Einar Guðmundsson, lækni, í Silfri Egils í dag. Einar talaði með lýðræðinu, gegn forræðishyggjunni, með virðingu fyrir samferðarfólki, gegn foringjadýrkun, með málefnalegri umræðu gegn klisjutali. Hann var sannast sagna kyngimagnaður. Hann sagði að á Íslandi hefðum við farið illa með lýðræðið. Við þyrftum að vanda okkur betur. Stjórnmálamönnum hætti til að forgangsraða í eigin þágu en ekki alamnnahags. Fyrst kæmu þeir sjálfir, síðan fokkurinn, síðast kæmi þjóðin. Þetta ætti að vera öfugt. Einar sagði...
17. Janúar 2010

...Jóhann studdi mál sitt nýlegri speki frá Guðmundi Ólafssyni, hagfræðingi. Þeir félagar segja að Icesave lausnin rúmist í tveimur setningum: 1) Íslendingar borga. 2) Ef Íslendingar geta ekki borgað, þá borga þeir ekki. Hvað þá? Jú, þá hvílum við, samkvæmt Jóhanni, í
faðmi siðmenningarþjóðanna. Einhvern veginn þannig var þetta orðað. Þeim Guðmnundi og Jóhanni virðist ekki umhugað um að Icesave-deilan sé leyst á grundvelli réttarríkis og sanngirni. Þetta er í ætt við málflutning þeirra sem segja að öllu skipti að klára málið - svo reddum við þessu seinna. Það verði örugglega eitthvað gert fyrir okkur í Brussel seinna. Þetta er ekki bara kúlulánahugsun frá 2007, heldur er þetta líka ...
16. Janúar 2010
Er það ekki nokkuð langt gengið að saka sænsk yfirvöld um að vera handrukkara og að það komi frá stjórnarþingmanni. Ég veit ekki annað en að þessi þjóð hafi komið fram við Íslendinga af rausn og háttsemi. Mér er minnisstæð aðstoð Svía í Vestmannaeyjagosinu sem var einstæð. ...
Pétur
16. Janúar 2010
Er ekki komin tími til að láta af þessum einstrengingshætti og viðurkenna að sök okkar Íslendinga felst í því að hafa látið líðast það ábyrgðarleysi sem stjórnvöld hafa viðhaft árum og áratugum saman. Fyrir það á þjóðin skilið ærlega flengingu. Ég sé enga skynsemi í hegðun þinni varðandi Icesave og finnst sorglegt að engin skuli leggja þér lið út úr þeim ógöngum. Það er dapurlegt þegar stjórnmálamenn skynja ekki ...
Kristjón Sigurðsson
15. Janúar 2010

...Kannski finnst Reinfeldt forsætisráðherra það vera í góðu lagi að gerast handrukkari. En hvað skyldi sænsku þjóðinni finnast um þetta nýja hlutverk sitt? Hvað skyldi þjóðinni sem átti Olov Palme finnast um að vera komin í fótgöngulið fjármagnsins gegn fólkinu? Skyldu menn almennt átta sig á því að viðhorfsbreytingin í Evrópu á meðal almennings er vegna þess að fólk er farið að stilla dæminu svona upp...
15. Janúar 2010
Birtist í Morgunblaðinu 14.01.10.

Í leiðara Morgunblaðsins á þriðjudag er fjallað um skattastefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og farið um hana óblíðum orðum. Fjármálaráðherra gerir því skóna að frekari skattahækkanir kunni að vera á döfinni en þegar eru orðnar og hljóti almenningur að vera farinn að lýjast að sitja undir sífelldum hótunum stjórnvalda um framtíðina.
Í leiðaranum er vísað í umræðu um skattamál fyrir síðustu kosningar. Það er vissulega rétt hjá leiðarahöfundi að stjórnmálamenn eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að standa við það sem þeir segja kjósendum.
15. Janúar 2010
...Lýðræði, eða sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar, þurfum við að ræða samhliða Icesave málinu, hvernig við byggjum hér upp réttlátara þjóðfélag sem er bæði opnara og lýðræðislegra en varð til undir forystu þeirra sem nú nálgast eftirlaunaaldur. Liður í þessu er sparkið sem forsetinn gaf okkur ...Fyrst fengum við ekki að kjósa af því við áttum ekkert, og af því við áttum ekkert höfðum við ekki vitið til að bera ábyrgð á atkvæði okkar. Þannig skilgreindi hin nýja stétt borgaranna lýðræðið á sinni tíð. Svo fengu karlar atkvæðisrétt, en ekki ...Ferskt dæmi er þegar forystumenn ríkisstjórnar krefjast þess að allir ráðherrar styðji skilyrðislaust öll mál sem fulltrúar framkvæmdavaldsins bera fram þótt ríkisstjórn sé fjölskipað stjórnvald, jafnvel þótt ...
Ólína
14. Janúar 2010
...Mig langar til þess að vita hvort að þú munir í aðdraganda þessara kosninga beita þér gegn lögunum og fara þá um leið í herbúðir stjórnarandstöðunar. Ég held að það hafi komið Íhaldsflokkunum á óvart það sem Ólafur gerði. Þeir hafi vonast til þess að hann myndi skrifa undir og þá gætu þeir haldið áfram að reyna að fella ríkisstjórnina og nítt niður forsetann. Ég var og er ósammála Ólafi en þetta er hans ákvörðun og mér dettur ekki í hug að...
Viðar Magnússon
14. Janúar 2010

... Þegar málsmetandi aðilar í evrópskum stjórnmálum, fjölmiðlaheimi og á meðal almennings taka undir með okkur, á faldi íslenskrar lýðræðisbylgju, hljótum við að lyfta jákvæðum röksemdum sem fram eru reiddar en ekki tala þær niður einsog hefur viljað brenna við. Í stað þess að horfa aftur á bak og sýta erfitt hlutskipti okkar eigum við að fagna því þegar staðan batnar og vinna að því að bæta hana enn meira. Það er verkefnið. Sjálfur hef ég alla tíð líkt þessari þrautagöngu við...
14. Janúar 2010
...Þessi augnablikin reynir e.t.v. mest á stjórnsýsluna. Ég leyfi mér að kalla Hrunið hegðunarvandmál sem ekki er verið að taka á. Það þarf að takast á við Hrunið með það i huga, en ekki með þröngt sjónarhorn AGS, vogunarsjóða og samningsaðila sem beita okkur valdi. Ríkisstjórnin er að ganga hagsmuna þeirra sem vilja „business as usual". Það stendur ekki til að gera nauðsynlegar grundvallarendurbætur á þeim þjóðfélagsstofnunum sem brugðust. Það er ekki með markvissum hætti verið að ráðast að rótum vandans...
14. Janúar 2010
Hlustaði á samtal þitt í útvarpinu í morgun - Útvarpi Sögu. Það er margt í því sem þú segir sem þjóðin þarf að vita.
Jóhann
14. Janúar 2010
Birtist í Fréttablaðinu 21.12.09.

...Ríkisstjórn VG og Samfylkingar hefur valið þá leið að reyna að fara bil beggja við þessar aðstæður - feta eins konar milliveg. Á þessu ári er hallinn á ríkissjóði um eitt hundrað og sextíu milljarðar. Á næsta ári má gera ráð fyrir að hann verði um eitt hundrað milljarðar. Þetta er umtalsverður halli en ástæðan fyrir honum er að sjálfsögðu sú, að við viljum komast hjá meiri niðurskurði og skattlagningu en raunin verður á. Við gerum okkur grein fyrir því að langt er gengið í hvoru tveggja, niðurskurðinum og skattlagningunni, og hefur því margoft verið lýst yfir af okkar hálfu að þessi mál verði að vera í stöðugri endurskoðun. Hitt er svo annað mál að þótt kreppan sé okkur erfið er ýmis sóknarfæri að finna....
13. Janúar 2010
Pétur ritar hér pistil undir fyrirsögninni "Ögmundur og Andríki." Hann virðist vera fulltrúi vaxandi stuðnings við þröngsýn öfl innan VG sem nú krefjast þess að innan flokksins rúmist aðeins ein rödd. Pétur telur þig "hugrakkan og valdfælinn héra", bersýnilega vegna skoðana þinna í Icesave-málinu og gerir þig að auki að taglhnýtingi Andríkis frjálshyggjumanna. Í þessum ummælum og málatilbúnaði birtast í allri sinni nekt síð-sovéskar aðferðir þar sem ráðist er á þá sem telja sig sjá fleiri en einn lit í regnboganum. En það er hrætt fólk og aumt sem óttast ...
Helga Þorsteinsdóttir
13. Janúar 2010
Ég hef verið frekar hlynnt að gera samkomulag um innlánsreikninga Björgólfs-feðganna í Hollandi og Bretlandi, en í morgun runnu á mig tvær grímur. Ég las merkilega grein eftir tvo lögmenn í Morgunblaðinu. Greinin er mjög skýr og mennirnir rökfastir...Það er nauðsynlegt til að við almennir kjósendur getum gert upp hug okkar. Við erum mörg sem erum orðin svolítið þreytt á þeim belgingi sem einkennir umræðuna...
Jóna Guðrún
12. Janúar 2010
Nú gefst tækifæri fyrir hugrakka og valdfælna héra að taka þátt í auglýsingaherferð Andríkis til að hafa áhrif á þjóðina. Þannig geta þeir deilt kostnaðinum með frjálshyggjumönnunum og útrásarvíkingunum í Andríki. Ekki veitir af að spara því það stefnir í bæði lengri og dýpri kreppu...
Pétur
12. Janúar 2010
Hvernig er það með alþýðubandalagsarminn í vinstri hreyfingunni - hægri snú? Hverra hagsmuna er hann að gæta? Sverrir Jakobsson fer mikinn í Fréttablaðinu í dag og finnst Icesave málið svo ómerkilegt að vöxtum að það nái varla nokkurri átt að vera tala um það. Einungis 11% af skuldum landsins! Hann fagnar hins vegar einkavæðingu Kaupþings (ég meina Arion með bónusgreiðslunum) og Íslandsbanka og þar með ríkjandi skipulagi í efnahagsmálum heimsins. Stöndum vörð um fjármagnseigendur segir Sverrir Jakobsson og minnist enn og aftur á að Ísland þarfnast umheimsins en umheimurinn ekki Íslands. Sverrir Jakobsson er nefnilega ...
Óháður kjósandi VG
12. Janúar 2010
Birtist í DV 11.01.10.

...Þetta skilja náttúruunnendur í Evrópu. "Ég gleymi aldrei hverasvæðunum og kraftinum í Dettifossi", skrifaði mér Hollendingur um daginn eftir að heyra viðtal við mig í hollenskri útvarpsstöð. Þegar Bretum og íbúum meginlandsins er bent á að málið snerti okkur öll, alla þá sem annt er um dýrmætar náttúruperlur, sem við sameiginlega viljum vera gæslumenn fyrir, þá breytist tónninn. Enn einn vinkillinn eru áhyggjur manna yfir gölluðu regluverki fjármálakerfisins ....Þessa stöðu verðum við að nýta okkur...
12. Janúar 2010
...Einn ráðherrann sagði í viðtali að þó það væri hægt að ná fram betra hlutskipti þá væri það ákaflega erfitt. Annar ráðherra skrifaði grein og sagði að við værum nú þegar með besta hlutskipti af öllum mögulegum því önnur væru verri. Svo var haft eftir þingmanni á vefmiðli að öll umræða sem beindist að öðru en núverandi samningi væri á villigötum. Mér finnst morgunljóst að þetta er hægt að draga saman í eina rödd sem segir: Ég get ekki, vil ekki og ætla ekki að ræða það. Það er kannski ekki við hæfi en þessi afstaða minnir mig helst á ...
Árni V.
11. Janúar 2010
Sú gíruga þoka sem hefur lengi umlukið margar valdastofnanir þessa lands hefur -meðvitað eða af hugsanaleti- leitt marga á villigötur. Grein þín um "Lýðræði eða forræði?" er mjög góð lýsing á annarlegum sjónarmiðum nokkurra vörslumanna valdsins í "akademíunni". Þeir mættu rifja upp að Akademían var upphaflega sett á laggirnar af Plató á helgistað Aþenu, já Aþenu, gyðju viskunnar. Þeir mættu líka minnast þess að allir menn, nema þá kannski siðblindingjar, vita hvað réttlætið er. Skuggi gilda okkar mannanna, hvort sem er í ...
Pétur Örn Björnsson
11. Janúar 2010

Egill Helgason mætti með
Silfur sitt á RÚV á sunnudag og færði okkur sjónarmið málsmetandi einstaklinga erlendis sem nú stíga fram hver á fætur öðrum og bera brigður á greiðsluskyldu Íslendinga í Icesave. Í þessum hópi eru
Alain Lipietz, sem sæti hefur átt á Evrópuþinginu og
Michael Hudson, prófessor við Missuori háskólann í Bandaríkjunum.
Eva Joly, góðvinur Íslands var einnig í þættinum í útsendingu frá París en hún hefur haldið fram svipuðum sjónarmiðum. Þetta er í ætt við það sem Íslendingar hafa sjálfir haldið fram og er að finna í ...
10. Janúar 2010
Staðreyndum verður ekki breytt með frösum eins og "síð-sovésk viðhorf" sem ég veit ekki hvað þýðir eða "lýðræði í skömmtum". Þetta eru ekki frasar frá mér heldur þér Ögmundur og e.h. Ólínu. Það sem ég bendi á er að það er ekki samasemmerki milli fjölgunar á þjóðaratkvæðagreiðslum um lagasmíð Alþingis og réttlátara samfélags. Ástæðan er sú að almenningur kýs með "buddunni". Þú virðist trúa því að Kárahnjúkavirkjun hefði ekki verið reist ef málið hefði farið fyrir þjóðina. Ég er ekki sammála þér og ég er nokkuð viss um að ...
Pétur
10. Janúar 2010

...Rökum Péturs um að lýðræði í of stórum skömmtum leiði til ranglætis andmæli ég á tvennum forsendum. Í fyrsta lagi þykja mér þau byggja á forrræðishyggju. Þetta voru rök......Þá má spyrja hvort það hefði verið til ills að efnt hefði verið til þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeildar ráðstafanir á undangengnum tveimur áratugum. Er það hollt að ríkisstjórninr komi "erfiðum málum", svo vitnað sé í prófessor Davíð Þór, auðveldlega í gegn? Hefði verið virkjað við Kárahnjúka, hefðu bankarnir verið einkavinavæddir og sjávarauðlindin ef þurft hefði að eiga það við þjóðina beint? Hefði heita vatnið verið einkavætt? Ég held...
9. Janúar 2010
...Síðan þetta var skrifað hefur stolt mitt vaxið, geng ég nú með þanið brjóst, svo ánægð er ég. Bæði vegna frábærrar frammistöðu forseta í samtölum við erlenda fréttamiðla, en fyrst og fremst vegna samtals hans við fjölmiðla og þjóð sína á Bessastöðum. Þar útskýrði hann ...Forseti missti sig um tíma, lét berast með þungum straumi kapitalísmans og peninganna, og varð uppvís að mörgum axarsköftum, en rakarasonurinn að vestan komst heim aftur og stillir sé upp með þjóð sinni gegnt stofnanaveldinu - gegn hinum upplýstu - gegn hinum síð-sovésku viðhorfum til sjálfrar þjóðarinnar...
Ólína
9. Janúar 2010
Ég er afar sáttur við þessa umdeildu ákvörðun forseta, að leggja Icesafe fyrir þjóðina og sýna, að virðing sé borin fyrir lýðræðinu. Það verður bara að koma í ljós, hver niðurstaðan verður og hver verða viðbrögð Breta, Hollendinga og jafnvel Evrópubandalagsins og Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins, Bregðist AGS illa við, hefur sjóðurinn viðurkennt, að ...
Friðjón Steinarsson,
Danmörku
9. Janúar 2010
Til hamingju Ögmundur. Þinn tími er kominn og ég vona að þú takir við flokknum. Þú verður fljótur að vinna okkur upp úr ruslflokknum og vinna bug á samsærisþjóðunum. Hins vegar er kannski ágætt fyrir þjóðina að vera í ruslflokki við byggjum hvorki stóriðju eða aðra vitleysu á meðan. Þá ber að fagna að fyrir baráttu þína höfum við...
Lapan
9. Janúar 2010
Ákvörðun forsetans var hvorki rökrétt né líkleg til að verða farsæl fyrir íslenska ríkið til lengri tíma litið. Með snöggum viðbrögðum ráðamanna getur verið að mesta skaðanum hafi verið bjargað fyrir horn í bili en það á eftir að koma í ljós. Viðtalið sem forsetinn átti við breskan blaðamann var ómerkileg uppákoma ...Það er langt frá því að aukin þátttaka almennings í stjórnun landsins með þjóðaratkvæðagreiðslum sé samasammerki með réttlátara samfélagi. Dæmin tala sínu máli. Í Bandaríkjunum eru til ríki sem ganga afar langt í þessum efnum og almenningur fær að kjósa um flest mál. Þessi ríki eiga það sammerkt að vera skuldugusu ríki Bandaríkjanna, opinber þjónusta er engin og félagslegt óréttlæti mest. Þá virðast lög í anda rasisma eiga greiða leið í slíku fyrirkomulagi eins og ...
Pétur
9. Janúar 2010
... Mér fannst málflutningur Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sannfærandi þegar hún færði rök fyrir því að nú væru forsendur til að færa Icesave inn í nýjan farveg í ljósi þess að málstaður Íslands nyti nú betri skilnings en áður á erlendri grundu. Kristján Þór Júlíusson heyrðist mér einnig vera á þessu máli. Aðalsteinn Leifsson taldi hins vegar að staða Íslands væri þrengri nú en áður. Mér fannst umhugsunarvert að heyra þá Kristján og Aðalstein ræða annars vegar hvort Bretar og Hollendingar væru líklegir til að gefa eftir (einsog Aðalasteinn spurði) og hins vegar hvort Bretar og Hollendingar myndu sætta sig við samninginn ef þeir væru í stöðu Íslands (einsog Kristján spurði). Þetta er nálgun deiluaðila. Nálgun Guðfríðar Lilju var hins vegar ...
Sunna Sara
9. Janúar 2010
Ég var ósammála forsetanum í dag og ég held að mikið af því fólki sem hann vitnaði í og þú hefur einnig gert Ögmundur hafi skrifað undir mótmælin vegna þess að það taldi að við gætum komist undan því að borga þessa skuld, en nú keppast hinir nýju viðhlæjendur forsetans við að fullvissa þjóðinna um það að við munum að sjálfsögðu borga þetta bara eftir okkar höfði. Vonandi ertu ánægður með nýju vinina þína og vonandi tekst að forða landinu frá frekari skaða en orðinn er,en finnst þér ekki rétt að þeir þríburar Bjarni,Sigmundur og Þór fái umboð til þess að fara til London og ganga frá þessu lítilræði. Finnst þér það ekki skjóta skökku við að ...
Viðar Magnússon
8. Janúar 2010
...En, þá getum við horft til manns eins og Þorgeirs Ljósvetningagoða, þess vitra manns, í von um að íslenskir stjórnmálamenn hætti á nýju ári að ástunda 4-flokka keppni í skítkasti, eða migu-keppni, heldur einbeiti sér að því EINU að leita leiða til að finna sameiginlega sáttargjörð fyrir hönd lands og þjóðar, að sameina en ekki sundra þjóðinni. Finni þeir þær leiðir og vinni eftir þeim, þá mun þjóðin fylkja sér tvíefldari en fyrr. En...þeirra leiða hafa íslenskir atvinnu-pólitíkusar, því miður, ekki enn borið gæfu til að leita í sameiningu að. Þangað til...spyrjum við um gildi friðarins á nýju ári...
Pétur Örn Björnsson
7. Janúar 2010
Samfara slökkvistarfi utanríkisráðherra á vegum brunaliðs stjórnarráðsins ætti sá ágæti maður að leyfa sér að hugsa stórt. Hugsa stórt og endurmeta nokkrar af þeim helstu undirstöðum sem utanríkisstefna Íslendinga hvíldi á, hvíldi á segi ég, enda hljóta bæði háskólasamfélagið og sumir reyndustu starfsmenn utanríkissráðuneytisins að átta sig á, að undanfarið hefur komið í ljós að utanríksstefna landsins er ein rjúkandi rúst eftir það skipbrot sem orðið er í samskiptum við svokallaðar vinaþjóðir Íslendinga. Bretar og Hollendingar, vinir úr NATO fara fyrir hjörðinni, en í humátt á eftir þeim feta sig, varlega, Norðurlandaþjóðir, aðrar en eyþjóðirnar í vestri. Þetta eru þjóðirnar sem hafa gert Eystrasaltslöndin að Afríku norðursins, hlaðið þar upp fé og mergsogið alþýðu manna í ...
Hafsteinn
7. Janúar 2010
...Ef við samþykkjum ríkisábyrgð á Icesave möglunarlaust og skuldir þjóðarinnar aukast sem því nemur, virðist sem við fáum betra mat á greiðsluhæfni ríkisjóðs, en ef áframhaldandi vafi leikur á því hvort við þurfum að borga, sem leitt gæti til minni skulda ríkissjóðs. Þetta þýðir einfaldlega að ef við skuldum sannanlega meira fáum við betra mat, en ef við skuldum hugsanlega minna. Fyrir hvaða bankastjóra getum við borðið þetta á borð, ef þetta snertir ...
Kristján Auðunsson
7. Janúar 2010
Mikið er skrifað í bresk blöð (sjá tengla í Guardian og Telegraph hér að neðan). Hér eru menn jákvæðari í garð Íslands en íslenska ríkisstjórnin. Eins eru íslenskir bloggarar á fullu út um allan heim að tala máli okkar og skýra út málstaðinn. Sorglegt að ríkisstjórnin skuli ekki vera í því liði...
Hreinn K
7. Janúar 2010
...Forsetin gerði akkúrat það sem honum bar að gera samkvæmt stjórnarskránni og hagsmunum þjóðarinnar gagnvart Icesave, en það er að láta þjóðina taka endanlega ákvörðun í málinu eins og það stendur í dag. Þegar fjárkúgararnir hafa afneitað lífsnauðsynlegum fyrirvörunum sem mikið var haft fyrir að samþykkja á Alþingi. Málið er að enginn Íslendingur neitar að standa í skilum réttmætra og sanngjarnra skulda, en það sem liggur fyrir er banvæn fjárkúgun sem ...
Helgi
6. Janúar 2010
...Það er að sjálfsögðu hjóm eitt að halda fram að nú sé kerfið allt ónýtt vegna þess að forseti hafi vísað máli til þjóðarinnar. Það þýðir miklu frekar að nú vitum við að kerfið virkar. Baki forseti sér persónulegar óvinsældir hjá gömlum vinum sínum þurfa þeir bara að ræða það í sínum hópi en það er óþolandi að heyra alla stjórnmálaskýrendur landsins taka upp umræður um félagslega einangrun Ólafs Ragnars.
Árni V.
6. Janúar 2010
Skemmdarverk sem jafnast á skemmdarverk útrásarvíkinganna. Hinn mjög svo vanstillti forseti Íslands hefur nú gert tilraun til að fremja eitthvert mesta skemmdarverk á íslenskri þjóð sem unnið hefur verið. Sem örlagavaldur getur þú Ögmundur eignað þér all nokkuð af "heiðrinum". Það sem gæti bjargað þjóðinni væri að við fengjum Alþingiskosningar sem fyrst og þá verður þjóðin að fá tækifæri til að kjósa stjórntæka hluta VG, þ.e. án þín...
Natan
5. Janúar 2010
...Hryggilegt er að sjá og heyra ýmis þau ummæli sem fallið hafa eftir ákvörðun forseta Íslands og æsingurinn eða uppnámið sem ákvörðun hans hefur kallað fram á bestu bæjum, er staðfesting á að lítið þarf til að koma alls kyns opinberum talsmönnum úr jafnvægi. Þeir ættu að róa sig niður. Hér varð efnahagslegt og menningarlegt hrun og við vinnum ekki bug á afleiðingum þess sem einstaklingar heldur sem þjóð. Þennan kost færir forseti okkur nú. Mér finnst ég geta verið stolt af forseta mínum. Kjarni ákvörðunar hans hefur að sumu leyti farið fyrir ofan garð og neðan í dag. Kjarninn er að mínum dómi þessi...
Ólína
5. Janúar 2010
Það er athyglisvert að heyra Paul Myners, breska bankamálaráðherrann, segja að ríkisstjórn hans muni aðstoða ríkisstjórn Íslands í þjóðaratkvæðisgreiðslunni til að tryggja rétta niðurstöðu. Ríkisstjórnin á því von á stuðningi erlendis frá við að kúga Íslendinga. Þetta kemur fram í ...
Hreinn K
5. Janúar 2010

Að mínu viti er erfitt að sjá hvernig forseti Íslands hefði getað komist að annarri niðurstöðu en hann gerði. Honum bárust undirskriftir fjórðungs atkvæðisbærra manna í landinu sem hvöttu til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þennan lýðræðilega vilja hlaut forsetinn að virða. Það hefur hann nú gert. Ég ítreka þá afstöðu mína að ríkisstjórnin á að sitja áfram. Hún var mynduð til að verja velferðarþjóðfélagið á Íslandi og má ekki hlaupa frá því ætlunarverki. Ég hef þegar lýst þessari skoðun í ...
5. Janúar 2010
Sundrungin í þjóðfélaginu hefur því miður orðið til þess að okkur Íslendingum hefur ekki tekist að sameinast um neina víglínu gagnvart kröfum Breta og Hollendinga. Þess vegna þurfum við nú að geta reitt okkur á forseta þjóðarinnar. Hann er sá eini sem getur hafið þetta mál upp úr skotgröfum pólitíkurinnar og þjappað þjóðinni saman til að verja hagsmuni sína. Þetta getur hann gert með því að bera Icesavemálið fyrir þjóðina. Flestir Íslendingar telja nú að draga eigi þessa víglínu um fyrirvara Alþingis sem settir voru á Icesave-ríkisábyrgðina í sumar þrátt fyrir að núverandi frumvarp hafi komist í gegnum þingið. Með Icesave lögunum í sumar sagði þjóðin við alþjóðasamfélagið að ...
Ólafur Elíasson
5. Janúar 2010
Sammála mati þínu á Icesave, þjóðaratkvæðagreiðslu og lífi ríkisstjórnarinnar. Það er ekki alþingiskosningar eða ný stjórnaróvissa sem þjóðin vill. Þjóðin kaus sér þessa ríkisstjórn í vor, þjóðin vill sennilega ekki Icesave-II, ef ríkisstjórnin vill ekki þessa þjóð er okkur vandi á höndum.
Gunnar Skúli Ármannsson
5. Janúar 2010
Ögmundur, ég var hissa þegar þú felldir tillögu Péturs Blöndal daginn svarta 30. desember vitandi það að Icesave gæti komist í gegn sem lög. Samt virði ég rökin þín í ræðu þinni þann kolsvarta og niðurlægjandi dag um að þú héldir að forsetinn myndi virða lýðræðið og þjóðarviljann. Öll mín trú á VG í heild hefur fokið út í veður og vind, þó ég trúi enn á ...
ElleE
5. Janúar 2010
Nú er svo komið, að forseti Íslands verður að leyfa þjóðinni að kjósa um Icsafe. Ég hef lesið töluvert af þeim erlendu blöðum, sem fjallað hafa um málið. Finnst reyndar tónninn hafa breyst núna og sumir, jafnvel breskir fjölmiðlar, sýna þjóðinni skilning og jafnvel samúð. Hvað sem skeður, á ríkisstjórnin auðvitað að sitja áfram. Það eina sem ríkisstjórnin hefur gert, var að taka við hruni nýfrjálshyggjunnar...
Friðjón Steinarsson
4. Janúar 2010
...Margar viðteknar stofnanir ríkisins og valdakerfisins hafa sofið á verðinum. Það er hverjum hugsandi manni augljóst. Þær verða að vakna og spyrja sig gagnrýninna spurninga um hvað þeim var ætlað að sinna, hver hlutverk og markmið þeirra áttu og eiga að vera. Þessar stofnanir eru td. Alþingi, stjórnmálaflokkar, dómstólar, stofnanir atvinnulífsins (þmt. SA og ASÍ), fjármálastofnanir og síðast en ekki síst fjölmiðlar. Þangað til þessar stofnanir, hinar hugmyndafræðilegu valdastofnanir, vakna af sofandahætti sínum, getum við ekki annað en sett spurningamerki við tilverurétt þeirra. Við erum hvorki meira né minna en að spyrja um sjálfa hornsteina lýðræðisins. Við þurfum að losna undan ...
Pétur Örn Björnsson
4. Janúar 2010
Mér þætti vænt um ef þú gætir skýrt þessa dæmalausu fléttu með/móti Icesave og þjóðaratkvæði. ps. ég hef ekki skrifað þér áður og geri ráð fyrir trúverðugu svari (t.d. að láta ríkisstjórn halda en samt halda haus) sem ég tel vera fullgilt og heiðarlegt svar...
GÖG
4. Janúar 2010
...Ég verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með þig í gær ég hélt að þú værir ekki maður sem létir þig fljóta með straumnum en ég sá það á atkvæði þínu að það gerðir þú í þetta skiptið að minnsta kosti samt ætla ég að vona að þú eigir góð áramót og að á næsta ári muntu sjá að þú gerðir ekki rétt.
Viðar Magnússon
4. Janúar 2010
Að mörgu leyti athyglisverð umfjöllun um Sigurð Nordal. Vandamálið er að vel menntaður og upplýstur maður þessa tíma gat vart lagt fram annað en það sem teljast verða tilviljunarkenndar fullyrðingar um nútímasamfélag. Þ.e.a.s. rökrétt fullyrðing samtímans er tilviljunarkenndur rökstuðingur okkar samtíma.
GÖG
4. Janúar 2010
Veist þú afhverju Guðfríður Lilja sem ég kaus í seinustu kosningum, sem var svo á móti Icesave, ætlar að kjósa með því á næstu dögum eftir að hafa sagt annað? Hún sem hefur verið mikill andstæðingur þess að við göngum inní kúgunarsamfélag ESB og AGS (eins og Ásmundur formaður Heimsýnar)...
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
3. Janúar 2010
... Þá er það rangt hjá Birni Val að forsetinn hafi kallað á Indefence. Sá hópur óskaði eftir fundi með forsetanum. Ef þeir Viljhálmur Egilsson og Gylfi Arnbjörnsson vilja viðra sínar persónulegu skoðanir á Icesave við forsetann hljóta þeir að óska eftir viðtali við hann. Hvers vegna ætti hann að hlusta meira á þá tvo en sextíuþúsund Íslendinga? En hvernig er það Ögmundur, er Björn Valur Gíslason að tala fyrir hönd VG? Eruð þið ekki fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu?
J.A. félagi í ASÍ
3. Janúar 2010
...Ljóst er undirrituðum að allmargir þingmenn stjórnarflokkanna höfðu þegið sakramentið áður en knallið hófst, og virtist tunguvefjan marga þeirra nánast ofurliði bera. Marshall virtist á tímabili birtast í fyrstu sem aðstoð, en góð nálgun fjaraði út enda búið að leggja þær línur sem þykja þurfti. Ég legg þunga áherzlu á, að framundan eru átök svo um munar og þá er gott að vera í liði því sem ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali
3. Janúar 2010

...Nú heyrist á stöku stjórnarliða - félaga minna - að komi til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem málið yrði fellt þá félli ríkisstjórnin jafnframt. Þessu mótmæli ég harðlega. Hér er ekki talað fyrir mína hönd! Þeir sem svona mæla eru reiðubúnir að fórna vinstri stjórn vegna Icesave. Ég vona að allir haldi ró sinni, horfi á málið af yfirvegun og spyrji sjálfa sig hvort sé mikilvægara, lýðræðið og félagslega þenkjandi ríkisstjórn eða sú útgáfa af Icesave sem nú liggur á borði forseta Íslands. Ég vona að menn geri sér grein fyrir því að það var norrænn velferðarfáni sem til stóð að hefja að húni í Stjórnarráði Íslands næstu fjögur árin. Það er ...
2. Janúar 2010

Forseti Íslands flutti að mínu mati sitt besta nýársávarp til þessa. Hann fjallaði um lýðræðið og hvatti til opnari, gagnsærri og lýðræðislegri stjórnarhátta...Menn velta því nú fyrir sér hvort forsetinn staðfesti Icesave-lögin eður ei. Þau sjónarmið heyrast að það sé ekki við hæfi að bera þetta tiltekna mál undir þjóðaratkvæði, það eigi bara við um önnur mál án þess að það sé skilgreint nánar hver þau eru. Í mínum huga er bara ein skilgreining sem máli skiptir: Lýðræðislegur vilji. Ef hann er fyrir hendi á að virða hann. Sá vilji birtist í tugþúsundum undirskrifta. Vinstrihreyfingin grænt frmaboð hefur alla tíð barist fyrir auknu vægi þjóðaratkvæðagreiðslunnar - og þar með hinu beina lýðræði. Við vildum ...
1. Janúar 2010

...Yfirlýsingar forsætisráðherra í áramótaávarpinu eru mjög mikilvægar og sérstakt fagnaðarefni. Þessum fyrirheitum þarf nú að fylgja eftir. Í ávarpi sínu sagði Jóhanna Sigurðardóttir um þetta efni:... Það ætti því að vera eitt af okkar brýnustu verkefnum að þessi ómetanlega auðlind, íslenska vatnið, verði skilgreind í stjórnarskránni sem almannaeign - engu síður en fiskurinn í sjónum...
1. Janúar 2010
...Var að hlusta á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Hvet þig og alla lesendur til að hlusta á hann, lesa ávarp hans af blaði og hugsa um orð hans. Honum hefur ekki mælst jafn vel að mínum dómi síðan 2001 - 2002. Því ber að fagna. Ólafur Ragnar er á leiðinni heim.
Ólína