30. September 2009
SÝNIĐ VARFĆRNI
Magnús
27. September 2009
Einar Ólafsson skrifar: EINKA-SJÚKRAHÚS FYRIR MILLJARĐA, 120 MILLJÓNIR FYRIR GRENSÁS
26. September 2009
Á FRAKKA SKÁLDS
Án þess að draga fjöður yfir þá skoðun mína að mörg mistök voru gerð á efnahagssviði á löngum fosætisráðherratíma Davíðs Oddssonar þá held ég að sagan muni ekki skilgreina hann sem einskæran sérhagsmunagæslumann, fjarri því. Rithöfundur er ekki sérhagsmunagæslumaður. Ég er til dæmis ekki viss um að Davíð stjórnmálamaðurinn sé meiri ...
Ólína
25. September 2009
ATLAGA AĐ EINKAREKSTRI?

...Sú spurning sem vaknar er þá þessi: Munu íslenskir sjúklingar leita inn á hina nýju einkaspítala og krefjast hlutdeildar hins opinbera í kostnaði? Liggur þetta í hugmyndinni? Munu sjálfstætt starfandi læknar vilja fá hið besta af báðum heimum, starfa á einkaspítala en jafnframt fá greiðslur frá hinu opinbera í gegnum Sjúkratryggingar? Hér gilda ekki eingöngu yfirlýsingar um ásetning manna því við verðum í alvöru að velta því fyrir okkur hvaða þrýstingur verður uppi þegar nýr einkarekinn veruleiki lítur dagsins ljós. Mikilvægt er að taka þessa umræðu strax. Um er að ræða hagsmuni sjúklinga, starfsfólks, skattgreiðenda, almannaþjónustunnar - og sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Sú staða gæti nefnilega skapast ...
25. September 2009
„ŢEIR SEM BERA MIKIĐ ÚR BÝTUM EIGA AĐ LEGGJA MEIRA AF MÖRKUM"

Viðtal í Viðskiptablaðinu 17.09.09.
..."Ég vil að minnsta kosti ekki þenja út nýja sjóði á sama tíma og við erum að draga saman endurhæfingu hjá aðilum á borð við Reykjalund og Grensás. Ég hefði því kosið að verkalýðshreyfingin beindi ekki bara sjónum sínum að sjóðum sem tengjast henni heldur heilbrigðiskerfinu almennt. Flestir sem njóta almannaþjónustu heilbrigðiskerfisins bera uppi verkalýðshreyfinguna og henni ber að verja hagsmuni almennings í þessu sambandi. Eða til dæmis berjast gegn markaðslausnum sem oftast reynast miklu dýrari, að minnsta kosti fyrir verkafólk sem veikist..."
20. September 2009
ŢEGAR FORTÍĐIN GUFAR UPP

Svolítð erfitt er að átta sig á Staksteinum Morgunblaðsins í dag að öðru leyti en því að ritstjóri blaðsins tekur þar undir með forystu Sjálfstæðisflokksins um að álitamál sé hvort sá flokkur eigi yfirleitt nokkra samleið með ríkisstjórninni í Icesave-málinu. Tilefnið er viðtal við mig síðastliðinn föstudag í Spegli RÚV þar sem ég furðaði mig á þessari afstöðu flokksins í ljósi þess sem á undan er gengið. Hef ég hvatt til þverpólitískrar samstöðu í þessu máli og minnt á að þegar þeirri aðferð hefur verið beitt í yfirstandandi erfiðleikum þjóðarinnar þá hefur það skilað árangri. Til marks um það eru Icesave fyrirvaranrir frá í sumar. Þar komu ....
20. September 2009
EKKI RJÚFA TRÚNAĐ VIĐ ŢJÓĐINA
Hreinn K
18. September 2009
SIĐFERĐI HÉR OG ŢAR
Ólína
18. September 2009
ÓHAGKVĆM ŢJÓĐFÉLAGSVISKA
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
18. September 2009
SJÁLFSTĆĐISFLOKKURINN BREGST!!!

...Undir þetta hafði forsætisráðherrann tekið. Í þessum anda hafði framkvæmdavaldið farið með málið inn í þingið, skuldbindingalaust - gengið til samráðs - í anda vinnulags sumarsins. Svarið sem ráðherrarnir fá er hins vegar afdráttarlaust. Við ætlum ekki að draga ríkisstjórnina að landi!!! Þetta voru skilaboð Sjálfstæðisflokksins. Svona hugsa þeir sem telja að flokkur sinn sé stærri en þjóðin. Þjóðin veit hins vegar að svo er ekki. Sjálstæðisflokkuriunn sýndi í kvöld hve agnarsmár hann er...
17. September 2009
ŢIĐ STÁLUĐ VONINNI
Þið voruð andvígir AGS (IMF) og þeir ...
EE elle
15. September 2009
ŢEGAR HUGMYNDA"FRĆĐIN" TEKUR YFIR

...Ef það hefði verið boðskapurinn frá hinum norrænu gestum þá hefði verið hægt að taka þá og yfirlýsingar þeirra alvarlega. Svona var það þó ekki. Þess vegna leitaði hugurinn upp á Kremlarmúrinn. Áttatíu árum eftir að hugsjónirnar dóu austur þar. Og við tók jakkafata- og (í minna mæli) dragtarklæddur veruleikinn. Veruleiki sem stýrður er af vel snurfusuðu fólki sem líður vel í öllum kerfum...
14. September 2009
AFBORGANIR TAKI MIĐ AF GREIĐSLUGETU
Kristbjörn Árnason
14. September 2009
ŢAKKIR TIL ÓLÍNU
Mér varð hugsað til þessa þegar Þorsteinn sagði í Moggaviðtali fyrir nokkrum dögum að sér þætti þjóðfélagsleg nauðsyn og ábyrgt þegar VG sviki stefnumál sín! Hver skyldu þessi stefnumál vera? ...
Grímur
14. September 2009
NÚ HLUSTUM VIĐ Á LĆKNA

...Þetta var upphaf forsíðufréttar Morgunblaðsins síðastliðinn fimmtudag. Þar var einnig vitnað til upplýsinga frá Lýðheilsustöð m.a. um dauðsföll af völdum reykinga. Upp í hugann komu bílarnir tveir, sundurtættir hvor andspænis öðrum ofan á gámi eða einhveju slíku, sem blasa við sjónum þegar ekið er upp á Hellisheiðina. Stórum stöfum segir frá hve mörg dauðaslys hafi orðið í umferðinni það sem af er ári. Nú stendur talan í tíu. Yfirleittt endar talan á milli tuttugu og þrjátíu. Dauðatalan vegna reykinga er nokkru hærri. Hún er fjögur hundruð - 400 - yfir árið! Sigríður Ólína Haraldsdóttir segir í fyrrnefndri Morgunblaðsfrétt að oftar en ekki verði sjúklingar undrandi þegar þeim er greint frá því að...
13. September 2009
STOPPIĐ LANDSSÖLUNA!
Skattborgari
13. September 2009
EKKI EINKAVĆĐA ELDHÚSIN!
Helgi
13. September 2009
ERLENDIS UNDIĐ OFAN AF EINKAVĆĐINGU
Villi
13. September 2009
EFTIRFARANDI ÓSKAST UPPLÝST...
Síðast afhjúpaði DV Bjarna Ármannsson enn einu sinni þegar blaðið sagði frá að 800 milljónir króna sem félag hans tók að láni þyrfti líklega að afskrifa. Fín frétt hjá DV. Hinir fjölmiðlarnir, þeir sem eru seinni til og þykjast sjálfir vera vandari að virðingu sinni, mættu mjög gjarnan upplýsa fyrir okkur eftirfarandi...
Gunnar
13. September 2009
Í ANDA MÓĐUR THERESU?

Nú er ár liðið frá því bandaríska/fjölþjóðlega fjármálafyrirtækið Lehman Brothers varð gjaldþrota. Í snarhasti voru milljarðar fluttir frá London vestur um haf - til að bjarga verðmætum "heim". Í London var skrifstofum lokað og þúsundir misstu vinnu sína í höfuðborg Bretlands. Nokkrum dögum síðar hrundu útibú Landsbankans í Bretlandi - eða öllu heldur þeim var hrundið. Breska stjórnin ákvað að frysta allar eigur Landsbankans með hryðjuverkalögum. Hvers vegna hryðjuverkalög á Ísland ...
12. September 2009
RÉTTLĆTANLEGUR SAMANBURĐUR? SVAR: JÁ
12. September 2009
2007-GAUR FYRIR FINNA
Ólína
11. September 2009
RUKKUĐ FYRIR ENGAN TILKOSTNAĐ!
Kristjana Al.
10. September 2009
AĐ VERĐSKULDA VÖLD

...Maður hefði ætlað nú eftir hrunið að slíkir aðilar temdu sér hógværð í málflutningi. Af viðtali við Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í Sjónvarpsfréttum í kvöld að dæma, hafa þessir aðilar ekkert lært. Hannes var stóryrtur í garð ríkisstjórnarinnar fyrir "að draga lappirnar" í endurreisnarstarfinu. Á hvern hátt skyldu stjórnvöldin draga lappirnar að mati SA? Þau vilja ekki, að sögn aðstoðarframkvæmdastjórans, að stóriðjustefnunni verði áfram hrundið fram af sama offorsi og til þessa (með geigvænlegri skuldsetningu orkufyrirtækjanna), þau vilji ekki hleypa erlendum fjárfestum í orkuiðnaðinn og þau vilji ekki virkja Þjórsá! Allt þetta vill Hannes ólmur að gert verði í snarhasti. Álíka ólmur er hann - og félagar hans í atvinnurekendasambandinu - og þeir voru áður fyrr að...
10. September 2009
ALVÖRU KREPPA HJÁ MÖRGUM
Pétur Örn
8. September 2009
RADDIR GĆRDAGSINS
8. September 2009
VERÖLDIN AĐ HĆTTI ŢORSTEINS
Ólína
8. September 2009
STEYPA FREMUR EN FÓLK?
Baldur Ragnarsson
7. September 2009
UM SIĐFERĐI FORMANNS BSRB
Hver er þín siðferðilega staða Ögmundur, nú þegar ráðist er að opinberum starfsmönnum af ríkistjórn sem þú situr í? Er þér siðferðislega stætt á því að þykjast vera talsmaður opinberra starfmanna lengur?
Stefán Arngrímsson
7. September 2009
10 ATHYGLISVERĐAR ATHUGASEMDIR STIGLITZ

Joseph Stiglitz fór almennnt vel í Íslendinga. Það leyfi ég mér að fullyrða. "Hófasamur" og "í góðu jafnvægi" voru lýsingar sem ég heyrði frá fleiri en einum eftir Silfur Egils í gær. Sama var uppi á teningnum eftir opna fundi hans í dag í Háskóla Íslands og með þingmönnum og ríkisstjórn. Ég ætla að nefna tíu atriði sem fram komu hjá Stigliz og mér þóttu athyglisverð...
6. September 2009
Baldur Andrésson skrifar: RÍKISÁBYRGĐ OG SKRUM
6. September 2009
STIGLITZ Í SILFRINU

Í dag verður Joseph Stiglitz í Silfri Egils. Þetta þykir mér vera góð byrjun á vetrinum hjá Agli! Stiglitz fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2001. Hann er fyrrum aðalhagfræðingur Alþjóðabankans en nú prófessor við Columbiaháskóla í New York. Stiglitz var á sínum tíma einn helsti efnahagsráðgjafi Bills Clintons forseta Bandaríkjanna. Stiglitz er kunnur fyrir gagnrýna hugsun og hefur umfjöllun hans um stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Aljþóðabankans í málefnum skuldsettra ríkja vakið athygli - þó ekki alltaf hrifningu ráðandi afla. Eitt er óhætt að fullyrða: Á Joseph Stiglitz er hlustað. Það verður og gert í ...
6. September 2009
ERLEND FJÁRFESTING AĐ HĆTTI FRJÁLSHYGGJU
Hreinn K
4. September 2009
SNÚUM VÖRN Í SÓKN

...Ekki svo að skilja að fyrr á tíð hafi heilbrigðisstarfsfólk ekki búið við miklu erfiðari aðstæður en nú. Það sem gerir hins vegar stöðuna verri núna er krafan um að vinda ofan af og draga saman. Það er erfitt. Ákvarðanir sem leiða til lakari þjónustu eða uppsagna eru - og eiga að vera - erfiðar. Verkefnið er hins vegar að reyna í lengstu lög að koma í veg fyrir að einmitt þetta gerist. Nú er það svo að ekkert kerfi er svo gott að það megi ekki bæta það og öll kerfi - þar á meðal heilbrigðiskerfið - eiga að vera í stöðugri endurskoðun. Orðið hagræðing er stundum - og reyndar oftast - notað sem feluorð fyrir niðurskurð. Það á ekki að gera. Ef hins vegar hægt er að snúa niðurskurði yfir í...
4. September 2009
MESTU MISTÖK ASÍ
Gunnar
4. September 2009
ALVÖRU VINSTRI STJÓRN RĆĐST EKKI Á ÖRYRKJA
Beztu kveðjur,
Sigurður Jón Ólafsson
4. September 2009
STJÓRNMÁLAMENN BRUGĐST
Magnus Jósefsson
4. September 2009
HANDBENDI AGS?
Pétur Örn
3. September 2009
OECD, NIĐURSKURĐUR OG AĐILAR VINNUMARKAĐAR

...En það eru heilbrigðismálin sem standa mér næst. Þar lýsir OECD því yfir að hægt sé að skera niður um fimmtung án þess að skerða þjónustu! Við þurfum ekki annað en líta til Spánar til að finna fordæmi, segja skýrsluhöfundar. Það sem gera þurfi sé að opna kerfið betur fyrir einkavæðingu og taka upp notendagjöld í ríkari mæli. Á mannamáli þýðir þetta að hækka eigi sjúklingaskatta. Prófessor í hagfræði sagði í Spegli RÚV í kvöld að almennt væri andstaða gegn hugmyndum OECD innan heilbrigðiskerfisins. Þetta þótti mér afvegaleiðandi yfirlýsing ...Mér heyrðist ég heyra í fulltrúum aðlja vinnumarkaðar tjá sig um skýrsluna og að hagfræðingur ASÍ hafi andmælt hugmyndunum sem snúa að heilbrigðiskefinu. Fróðlegt verður að fylgjast með fulltrúum samtaka launafólks þegar næsta niðurskurðarhrina í anda OECD og AGS byrjar í veflerðarkerfinu. Ekki hafa mér virst þeir bera mikinn kvíðboga fyrir niðurskurðinum til þessa og vísa ég þá í ...
3. September 2009
FERĐALEIKHÚS OECD KOMIĐ
Ólína
2. September 2009
AGS OG HS
Kristín Þórarinsdóttir
2. September 2009
EKKI EINKAREKSTUR Á OKKAR KOSTNAĐ
Ágúst
1. September 2009
Í BESTA FALLI LÁNŢEGAR

Í gær var mér kynnt nýtt hugtak á íslenskri tungu: lánþegi. Kannski er hugtakið alls ekki nýtt. En í þeirri merkingu sem mér var kynnt orðið er það nýlunda. Alla vega ekki ýkja gamalt. Hugtakið í hinni nýju merkingu átti við þegar Landsbanki og Búnaðarbanki voru "seldir". Þá var lánað fyrir sölunni og það sem síðan á annað borð var greitt, var borgað með arðinum af hinum keypta banka. Nú stendur til að hópur fjármangara sem kalla sig Magma Energy, kaupi sig inn í orkugeirann á Reykjanesi. Fyrst í stað var því haldið fram að með þessum kaupum kæmi nýtt erlent fjármagn inn í landið. Nú kemur á daginn að ráðgert er að útborgun Magma sé aðeins 30% af kaupverðinu. Keypt er á hálfprís því svo lágt er krónan metin eins og sakir standa: 50% afsláttur þar. Þau 70% sem eftir standa eru lánuð!....
1. September 2009
BREIĐ SAMSTAĐA SKILAĐI ÁRANGRI

...Fyrirvararnir eru af tvennum toga. Í fyrsta lagi efnahagslegir fyrirvarar sem hagfræðingahópur í þinginu vann að. Á engan er hallað að nefna Pétur H. Blöndal á nafn öðrum fremur í þessu verki en hann hefur beitt sér frá upphafi fyrir því að settir yrðu fyrirvarar sem tengdu afborganir hagvexti. Lilja Mósesdóttir, Þór Saari, Tryggvi Þór Herbertsson og fleiri komu að þessari vinnu. Í öðru lagi eru það lögfræðilegir fyrirvarar. Grunnplaggið að þeim kom frá baráttumönnum í Indefense hópnum og þá sérstaklega Helga Áss Grétarssyni sem skilaði frábærri faglegri vinnu en síðan fékk hópur undir formennsku Eiríks Tómassonar það verk að samræma sjónarmið og áttu Helgi Áss og Benedikt Bogason þar einnig sæti, ásamt starfsmönnum ráðuneyta. Ragnar Hall og fleiri lögfræðingar komu einnig að þessum málum...
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EĐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLĆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIĐLAR SKOĐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












