31. Janúar 2008
Einar Ólafsson skrifar: EKKI ÞÖGN HELDUR AÐGERÐIR
31. Janúar 2008
EGIL Á KASTLJÓSTÍMA!
Það var gaman að hlusta á heimspekinginn Zizek ræða hugðarefni sín í Kiljunni í gær. Framsetning öll var mjög hröð og allt lagt undir...Kiljan er án efa besti fjölskylduþáttur sem sjónvarpið býður uppá og mætti vera á kastljóstíma til að mæta betur þörfum yngri aðdáenda.
Bjarni
31. Janúar 2008
ÞÖRF Á LÝÐRÆÐISLEGRI UMRÆÐU UM UTANRÍKISMÁL

...Ég hef oft kvartað yfir því á liðnum árum hve lítil umræða hefur farið fram um tengsl Íslands við umheiminn, Alþjóðabankann, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Alþjóðaviðskiptastofnunina og aðrar fjölþjóðlegar stofnanir sem við eigum aðild að. Á vettvangi þessara stofnana hefur oft verið haldið fram viðhorfum í nafni íslenskrar þjóðar án þess að nokkur stefnumótandi vinna hafi farið fram á Alþingi um þessi skilaboð sem send eru út í heim í okkar nafni...Þetta kemur upp í hugann vegna umræðunnar á Alþingi í dag en einnig vegna hugrenningartengsla eftir að lesa stórgott Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins um síðustu helgi. Í þessu Reykjavíkurbréfi er...
25. Janúar 2008
Finnur Dellsén skrifar: HERSHÖFÐ-INGJAR NATO VILJA BEITA KJARNORKU-VOPNUM AÐ FYRRA BRAGÐI
25. Janúar 2008
INNSÝN Í RANGLÁTT KVÓTAKERFI
Aðalsteinn Baldurssson, formaður Matvælasviðs Starfsgreinasambandsins, hefur gengið fram fyrir skjöldu og krafist raunverulegra mótvægisaðgerða til varnar fiskvinnslufólki sem nú missir unnvörpum atvinnu sína vegna samdráttar í fiskvinnslunni. Hundruð einstaklinga hafa þegar misst vinnuna eða munu gera það á næstunni um lengri eða skemmri tíma...Atburðir síðustu daga hafa enn einu sinni fært okkur heim sanninn um hvar völdin liggja í sjávarbyggðunum. Þau liggja hjá handhöfum kvótans. Á þeirra valdi eru örlög sjómanna, fiskvinnslufólks og einnig heilla byggðarlaga. Allir vita að sjávarútvegsfyrirtækin, hvort sem er í útgerð eða fiskvinnslu eru mörg hver verulega skuldsett og þar með veðsett. Hvað þýðir það? Það þýðir að ef...
25. Janúar 2008
HEFUR VG FENGIÐ FATASTYRKI?
Hafdís
25. Janúar 2008
AF HEILUM HUG
25. Janúar 2008
HVAÐ FÉKK BINGI Í BAKIÐ?
Þórður
24. Janúar 2008
SÝNUM ANDSTÖÐU VIÐ RÁÐHÚSIÐ
Guðrún Sveinsdóttir
23. Janúar 2008
NÝR MEIRIHLUTI OG DAGAR LANGRA HNÍFA
Þorgrímur
22. Janúar 2008
FORSETI ALÞINGIS LEIÐRÉTTUR
19. Janúar 2008
HIN ÞÖGLU SVIK
18. Janúar 2008
HVER BER ÁBYRGÐ Á BILUNUM?
Guðjón Jensson
16. Janúar 2008
EINKAVÆÐINGIN Á LANDSPÍTALANUM

...Læknaritarastarfið er eitt af lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu. Persónuverndarsjónarmið og krafa um góða fagmennsku eru þar grundvallaratriði. Læknaritarar vilja að sjálfsögðu koma að endurskipulagningu á verksviði sínu ef um slíkt ætti að vera að ræða. Furðu sætir að stjórnendur á LSH skuli sýna starfsstéttinni þá framkomu sem raun ber vitni...
15. Janúar 2008
ÞÖGLI FÉLAGINN
Birtist í Fréttablaðinu 14.01.08.
Öllum er nú að verða ljóst hvert stefnir á sviði heilbrigðismála. Sjálfstæðisflokkurinn er að komast á fullan skrið með að hrinda heilbrigðisþjónustunni út í einkarekstur. Skoðanakannanir hafa sýnt að þessi stefna nýtur ekki stuðnings þjóðarinnar. Þess vegna er beitt gamalkunnri aðferð: Við erum að gera tilraun með útvistun á starfi læknaritara, segja fulltrúar heilbrigðisráðherra á Landspítala, og að tilrauninni lokinni verður allt ferlið vegið og metið faglega og saglega. Allir vita að eftir að einkafyrirtæki verða búin að koma sér upp starfsemi með aðstöðu og mannahaldi verður illmögulegt að snúa til baka. Þetta eru sömu óheiðarlegu vinnubrögðin og endranær. Þannig er framlag til...
14. Janúar 2008
ER HÆGRI SINNAÐUR MÁLFLUTNINGUR AÐ FÆLA FÓLK FRÁ SAMFYLKINGUNNI?
Sunna Sara
13. Janúar 2008
BRESTIR INNAN STJÓRNARFLOKKANNA?
Í 24 Stundum lýsir Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, því yfir að honum líði vel í ríkisstjórninni. Í Silfri Egils lýsir Ragnheiður E. Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, því yfir að sér líði afar vel í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ... Hefur þú skýringu á því Ögmundur, hvers vegna stjórnarsinnar eru svona uppteknir af því að tala um vellíðan sína í ríkisstjórn?
HaffI
13. Janúar 2008
RITSTJÓRI FRÉTTABLAÐSINS BLÆS Á ÞJÓÐARSAMSTÖÐU Í ALBANÍULEIÐARA

...Í reynd er hann að segja við ríkisstjórnina: Hættið að leita eftir samstöðu með þjóðinni, þið hafið völdin, nýtið þau eftir eigin höfði. Þeir sem staðið hafa í þeirri trú að yfirvegun og víðsýni einkenni skrif Þorsteins Pálssonar þurfa að endurmeta þá afstöðu sína. Síðan er hitt umhugsunarvert, hvort þessi áhugamaður um samstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar beri einhvern kvíða í brjósti þessa dagana og sjái ástæðu til að stappa stálinu í sína menn....Hvern er verið að skamma? Væntanlega þann aðila sem helst hefur tjáð sig í þá veru sem hér er vísað til, nefnilega Seðlabanka Íslands og stjórann þar á bæ, Davíð Oddsson. Þetta kölluðu menn í gamla daga að skamma Albaníu...
12. Janúar 2008
AÐFERÐAFRÆÐIN VIÐ EINKAVÆÐINGU HEILBRIGÐISKERFISINS
Dómus hafði einfaldlega slegið lán fyrir hinu dýra tæki, þangað var síðan leitað um þjónustu, jafnvel af helstu sjúkrahúsum landsins. Málið var í höfn - á kostnað skattborgarans! ...Það sem ég er að færa rök fyrir er að sú formúla sem við höfum komið okkur upp hér á landi er kjörin til einkavæðingar ef yfirstjórn heilbrigðismála í samvinnu við fjárveitingarvaldið er á þeim buxum. Formúlan er þessi: Skattgreiðandinn borgar óháð rekstrarformum sem búa öll við sambærilega réttarstöðu. Síðan er ...
11. Janúar 2008
Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: AÐ TAKA ÁBYRGÐ Á EIGIN GJÖRÐUM
Og einmitt nú eru samningar að hefjast. Veslings hagfræðingarnir sem nú hafa með höndum það hlutverk að vernda herra sína jafnframt því að telja kjarkinn úr verkafólki. Í öðru orðinu reyna þeir að kjafta upp hlutabréfin og í næstu setningu segja þeir að allt sé að fara fjandans til...
11. Janúar 2008
HELDUR FJÁRMÁLARÁÐHERRA AÐ VANDINN HVERFI MEÐ ÞVÍ LOKA AUGUNUM?

...Heldur Árni Mathiesen að málið sé þar með út af borðinu? Að sjálfsögðu ekki. Vandinn sem við blasti á vaktavinnustöðum árið 2005 hefur vaxið en ekki minnkað.Hann er sá að sífellt erfiðara reynist að ráða fólk til starfa þar sem fólk þarf að vinna á öllum tímum sólarhrings, svo sem innan löggæslu, í heilbrigðisstofnunum, á dvalarheimilum aldraðra og í stofnunum sem sinna fötluðum. Bókunin í kjarasamningunum 2005 var gerð til þess að reyna að finna lausn á raunverulegu vandamáli. Verkefnið hverfur ekki þótt fjármálaráðherra og hans lið gefist upp. Kröfurnar verða á samningaborðum aðildarfélaga BSRB og BHM þegar samningar losna með vorinu. Fjármálaráðherra er hins vegar að glutra niður tækifæri til að taka á vandanum á heildstæðan hátt og búa jafnframt í haginn fyrir komandi kjarasamninga. Þetta kalla ég að...
9. Janúar 2008
VEGIÐ AÐ STARFSHEIÐRI LÆKNARITARA
Læknaritari
9. Janúar 2008
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN BYRJAÐUR AÐ EINKAVÆÐA HEILBRIGÐISKERFIÐ
8. Janúar 2008
ÞAKKA STUÐNING
Læknaritari á Landspítala
7. Janúar 2008
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar: ER FÓLK FYRIR?
Nú stefnir í að kollvarpa eigi starfsumhverfi og réttindum læknaritara á Landspítala háskólasjúkrahúsi án nokkurs samráðs við stéttina. Ekki kemur á óvart að einkavæðing stéttarinnar sé auglýst í boði „skilvirkni" og „hagræðingar". Þetta er sama lumman og endurtekin hefur verið í hverju einasta einkarekstrar- og einkavæðingarmáli undanfarin ár. Er ekki löngu kominn tími til að sjá í gegnum þessar þreyttu tuggur og auglýsingabrellur „skilvirkra hagræðinga", brellur sem fela hinar grafalvarlegu staðreyndir, eins og til dæmis það að þetta vegur gróflega að fólkinu í landinu? Hvers eiga læknaritarar að gjalda?
7. Janúar 2008
AÐ LIFA TÍUNDA HLUTA ÍSLANDSSÖGUNNAR

Merkilegt að finna fyrir nið tímans. Það fannst mér ég gera við útför móðursystur minnar Sigríðar Ö. Stephensen frá Hólabrekku á Grímstaðaholti í Reykjavík í dag. Sigríður lifði heila öld. Hún var fædd í mars árið 1908 og átti tæpa þrjá mánuði í að hafa lifað í rétt hundrað ár. Líf hennar spannar því nær tíunda hluta Íslandssögunnar. Um Sigríði skrifar systursonur hennar, Björn Jónasson í Morgunblaðið í dag: „Sigríður, var borinn og barnfæddur Reykvíkingur, fæddist í Hólabrekku og bjó þar í næstum heila öld. Hennar bær var Reykjavík, borgin sem hún horfði á breytast úr smábæ í volduga borg. Og hennar öld var tuttugasta öldin. Öldin sem breytti Íslandi meir en nokkur öld hafði gert áður. Öld sjálfstæðis, öld stríða, öld síma og samgöngubyltingar, öld vatnsveitu og nýrra viðskipta- og atvinnuhátta."
7. Janúar 2008
ÚTVISTUN Á STÖRFUM LÆKNARITARA
...Þannig hefur komið í ljós að sá aðili sem mestan áhuga hefur sýnt þessu verkefni er fjárfestingarsamsteypan Veritas Capital sem er eignahaldsfélag umboðs- og lyfjadreifingarfyrirtækja. Er það snjöll ráðstöfun að fela lyfjafyrirtækjum, eða aðilum sem þeim eru tengd, að annast sjúkraskýrslur á stærsta sjúkrahúsi landsins? Svari hver fyrir sig. Ég er hræddur um að Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra komist ekki hjá því að svara Hann komst upp með að þegja þegar hann var inntur eftir þessu á þingi fyrir þinghlé en á bak við þögnina getur ráðherrann ekki skýlt sér lengur.þessari spurningu á Alþingi þegar þing kemur saman.
6. Janúar 2008
FRAMTÍÐ FORSETAEMBÆTTISINS
...Ég tel að ekki eigi að einskorða umræðuna við það hve lengi forseti situr heldur hvert við viljum að verði inntak embættisins. Mín skoðun er sú að hið pólitíska hlutverk eigi að hvíla hjá Alþingi og ríkisstjórn sem starfar í umboði þess. Embætti forseta Íslands eigi fyrst og fremst að þjóna menningarlegu hlutverki. Forseti eigi að tala máli lands og þjóðar, halda á loft gildum sem sameina, styrkja okkur og efla sem þjóð. Þetta hefur núverandi forseti iðulega gert prýðilega. Sem áður segir hef ég hins vegar gagnrýnt þegar mér hefur þótt forseti vor ganga of langt, fyrir minn smekk , inn í auðmannafaðminn. Það faðmlag er varasamt í heimi þar sem auðmagnið er að færa sig upp á skaftið gagnvart samfélaginu, ásælist eignir þess og völdin yfir því. Grímur Thomsen hefði...
6. Janúar 2008
STÓR EN JAFNFRAMT SMÁ
5. Janúar 2008
EIGA EKKI LANDEIGENDUR AÐ STÖÐVA LÖGBROTIN?
Jón Þórarinsson
4. Janúar 2008
UM ENDURSKOÐUN UMFERÐARLAGA
Sigurjón
4. Janúar 2008
FORMAÐUR SJÓMANNASAMBANDSINS: EINKAVÆÐING ÖRYGGISEFTIRLITS TIL ILLS

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands kom fram í fréttum í dag og kvað hann sér vera verulega brugðið að heyra hversu illa öryggismálum væri komið um borð í íslenskum bátum og skipum. Sævar sagðist óttast að eftirlitið hefði slaknað eftir að skipaskoðun fór frá Siglingastofnun til einkafyrirtækja...Röksemdir Sævars Gunnarssonar eru skýrar: Það fer ekki saman að græða á öryggiseftirliti og sinna því sem skyldi. ...Rafmagnsöryggiseftirlit var einkavætt á Íslandi fyrir nokkrum árum með hörmulegum afleiðingum. Ég var í hópi þeirra sem mótmæltu hvað ákafast. Sagði að öryggiseftirliti myndi hraka, það kæmi til með að hafna í fákeppni, flytjast af landsbyggð til Reykjavíkur og yrði dýrara fyrir skattborgarann. Allt þetta gekk eftir og væri fróðlegt að rannsóknarfréttamenn færu í saumana á því máli...
3. Janúar 2008
ENDURSKOÐUN LAGA UM FORSETA ÍSLANDS
NH
3. Janúar 2008
BINDINDISMANNI BREYTT Í TAPPA
Sigurfljóð Hermanns
2. Janúar 2008
HANGILÆRI TIL RÍKISSAKSÓKNARA
NN
1. Janúar 2008
HUGSJÓNASTARF OG ÞJÓÐARVILJI

...Reyndar held ég að það sé máti Svandísar að tala til fólks þannig að það hrífist af. Hún er með félagslegar hugsjónir sínar á hreinu á sama tíma og hún talar það sem kallað er mannamál. Allt þetta, andúð fólks á spillingu, löngun til að halda eignarhaldi á orkulindunum hjá þjóðinni og væntumþykja um hugsjónafólk, varð til þess að Svandís nýtur stuðnings í þeim mæli sem opin kosning hjá RÚV ohf leiddi í ljós. Hjá Stöð tvö var fíkniefnadeild lögreglunnar fyrir valinu. Það þótti mér einnig gott. Málefnið og mennirnir eiga skilið að fá athygli og löggæslan vel að lofinu komin...
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIÐLAR SKOÐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












