Beint á leiðarkerfi vefsins

31. Desember 2008

ÁRAMÓTAKVEÐJUR


Ég færi lesendum síðunnar góðar kveðjur á síðasta degi ársins. Þetta ár hefur verið viðburðaríkt og undir lokin erfitt eins og við öll þekkjum. Framundan eru hjá okkur öllum verkefni að kljást við, bæði stór og smá. Ég vona að árið framundan - árið 2009 -  verði ykkur hverju og einu  gott og þjóðinni gæfuríkt.

31. Desember 2008

ÞÖGN Á MIÐNÆTTI?

Rakst á þetta: Velti því fyrir mér hve sterkt það væri ef við Íslendingar allir sem einn. - Tækjum okkur til og .. Hættum að skjóta upp flugeldum 5 mínútum fyrir 12 á miðnætti þann 31. des. og byrjuðum ekki aftur fyrr en 5 mínútur yfir tólf, eða klukkan 24:05 þann 1. jan. 2009. Ef við hefðum algera þögn frá 23:55 - 24:05 á gamlárskvöld, á meðan við kveðjum gamla árið og tökum á móti því nýja. Og ef við ...
Kristján

30. Desember 2008

ÓVART FYNDINN

Atvikin á lífsleiðinni eru óútreiknanleg en eitt er víst - þau verkast jafnan þannig að allir menn lenda í því einhvern tíma að verða óbærilega fyndnir, jafnvel af grafalvarlegum málum. Þetta henti Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra í haust, nánar tiltekið 14. október þegar útbýtt var á Alþingi frumvarpi hans til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða...
Þjóðólfur

30. Desember 2008

BREYTA VERÐUR VERÐTRYGGINGU Á HÚSNÆÐISLÁNUM

Til langframa getur það aldrei gengið, að verðtrygging á íbúðarlánum taki ekki mið af verðmætabreytingum á því húsnæði sem lánið er bundið við. Ég veit að þetta getur verið nokkuð snúið í úrvinnslu en ekki óyfirstiganlegt. Þetta verður einfaldlega að vera það, ef það á að verðtryggja húsnæðislán. Annars eru húsnæðislánin alltaf í bullandi eignaráni frá þeim sem eru með húsnæðislán. Eignaupptaka heitir það í málfari hagfræðinga. Jafnræði verður að ríkja milli bankans og þess sem tekur lánið. Við erum með í gangi vísitölu sem við köllum fasteignamat, með því að það mat yrði gert nákvæmara t.d. eftir ...
Kristbjörn Árnason

30. Desember 2008

LÍFEYRISPARNAÐUR OG BANKABRELLAN

Margir hafa farið illa út úr söfnun viðbótarlífeyrissparnaðar hér á landi vegna óvarlegra fjárfestinga sumra sjóðsstjóra þeirra og tapið stórt hjá sumum. Mér fannst vera í farvatninu fall á þessum sjóðum í árslok 2007 og hvatti þá fólk til að setja þetta allt saman yfir á 100% verðtryggða reikninga og í dag er þetta fólk vel sett. Þess vegna hvet ég alla sem leggja þetta framlag sitt til hliðar að koma því strax í öruggt skjól í 100% verðtryggða reikninga og sýnist mér að sumir bankarnir ...
Þór Gunnlaugsson

30. Desember 2008

STÖÐVUM FJÖLDAMORÐIN Á GAZA


Ræða flutt á útifundi á Lækjartorgi

Hvað á að segja um atburðina á Gaza?
Hvaða mælikvarða á að nota á þau voðaverk sem þar eru nú framin?  Að ráðist er á fólk sem í reynd er innilokað í fangabúðum; fólk sem getur ekki forðað sér undan sprengjuregni og stórskotahríð? Á að minna á að árásarliðið er brotlegt gagnvart hinum Sameinuðu þjóðum, margútgefnum yfirlýsingum og samþykktum? Að úrskurðir Mannréttindadómstólsins séu virtir að vettugi, Genfarsáttmálinn um mannréttindi brotinn?
Þarf kannski að útlista ...

30. Desember 2008

FJÖLMENNUM Á LÆKJARTORG


Ég hvet alla þá sem kost eiga að sækja útifund á Lækjartorgi klukkan 16 í dag til að mótmæla fjöldamorðunum á Gaza svæðinu í Palestínu. Þeir sem fylgst hafa með fréttum undanfarna daga gera sér grein fyrir hve mikið er í húfi að takist að stöðva grimmdarverkin. Fundurinn krefst þess að stjórnmálasambandi verið slitið við Ísrael þar til látið verði af ofbeldinu...

29. Desember 2008

HAFIÐ ÞÖKK HALLGRÍMUR OG ÚLFAR!


...En hvað gerist? Eftir að Úlfar fór höndum um mig og Hallgrím, við að kynna okkur, menn sem vel rúm 300 ár skilja að, þá er ég farinn að fletta upp í Guðbrandi Þorlákssyni biskupi á Hólum, 16. Og 17. aldar afreks- manninum og Arngrími lærða, Brynjólfi Sveinssyni, Guðríði brottrændri og ....Ég sagði í Þorláksmessupistli hér á síðu að ÚÞ væri góður sagnamaður, frábær penni ... Nú segi ég ...Þú hefur skilað af þér bókmenntaafreki! Öllu á dýptina; heimspekina, sögulega innsýn, manneskjuna...

28. Desember 2008

AÐILD AÐ EVRÓPU-SAMBANDINU: BANVÆN HUGSUN

...Ég skil ekki þá sem horfa nú til Evrópubandalagsins í ljósi viðbragða ríkjanna til fjármálakreppunnar þar sem hvert ríki er með sér lausnir fyrir sig. Hollendingar þjóðnýttu Rebobankann í Hollandi þvert á vilja Belga og Lúxenborgara þar sem þessi banki starfaði líka. Þjóðverjar slitu sig úr samstarfi við önnur ríki innan bandalagsins við lausn sinna mála einnig Bretar. Bretar, sú hernaðarþjóð,  hræddist stjórn okkar og þjóð það mikið að þeir settu á okkur hryðjuverkalög. Sýnir þetta okkur ekki að hver hugsar um sig þegar á hólminn er komið? Nema Íslendingar sem ætla að gefa fiskimiðin og orkuna fyrir evruna. Þetta er sveitamennska ekkert annað, banvæn hugsun fyrir land og þjóð. Þessi tilhneiging að...
Norðlendingur

28. Desember 2008

KRAFAN ER KJARAJÖFNUN - EKKI ALMENN LAUNALÆKKUN


Í fréttum í dag var ágætt viðtal við Þuríði Einarsdóttur, formann Póstmannafélags Íslands. Hún sagði að farið væri að skerða kjör póstburðarfólks. Gæti kjaraskerðingin numið 10%. Það væri stór biti fyrir fólk með innan við 200 þúsund krónur í tekjur. Ég vil taka undir með formanni PFÍ. Greinilegt er að upp er kominn alvarlegur misskilningur hjá þeim sem stýra stofnunum og fyrirtækjum. Þeir virðast halda að gefið hafi verið grænt ljós á launalækkun hjá launaþjóðinni einsog hún leggur sig. Það er af og frá. Það eru topparnir sem eiga að lækka. Þeir lægstu eiga að hækka. Krafan er kjarajöfnun. Ekki ...

28. Desember 2008

Helgi Guðmundsson skrifar: ER VERÐ-TRYGGINGIN EKKI UMRÆÐU-VERÐ?

...Má hugsa sér að búa til réttlátari vísitölu, jafnvel böndu af bygginga-, launa-, og neysluvöruverðs vísitölum? Í öllu falli er ljóst að lántakandinn ber kúfinn sem myndaðist vegna verðbólgu á árinu 2008 í mörg ár, jafnvel þótt laun hans standi í stað eða lækki. Eitt ætti að blasa við: verkalýðshreyfingin og lífeyrissjóðirnir eiga að hafa frumkvæði að umræðum um skynsamlega lausn á þessum brennandi vanda. Hver sú lausn er skal ósagt látið hér, en launafólk má ekki fá á tilfinninguna að verkalýðshreyfingunni sé nákvæmlega sama - starfi eins og hver annar banki í gegnum lífeyrissjóðina.  Hin fjölmenna millistétt sem nú lætur að sér kveða undir forystu listamanna (hve úthaldsgóð hún verður er annað mál) virðist líta á hreyfinguna eins og ráðuneyti, eða seðlabanka eða ...

28. Desember 2008

HVERS VEGNA ÞURFTI NAFNLAUSA ÁBENDINGU?


...En hvers vegna lögreglan? Jú, hún hafði fengið nafnlausa ábendingu! Ha? Þurfti nafnalausa ábendingu? Er ekki búið að vera að rannsaka þessi mál? ... Þetta gerist á sama tíma og ríkisstjórnin sker niður í almannatryggingum, við fatlaða, við skólakerfið, heilbrigðiskerfið. Þetta gerist líka á sama tíma og verið er að hlaða skuldum og sköttum á bakið á launaþjóðinni langt fram í tímann.  Á sama tíma og byrjað er að skerða kjörin hjá launalágu póstburðarfólki. .. Þetta er samhengið. Þau sem völd eru að óförum okkar kunna að hafa skotið undan sem nemur þriðjungi af fjárlögum. Bara si svona. Málið skoðað en engin alvöru rannsókn! Stöð 2 hefur síðan eftir Fjármálaeftirlitinu að þar hafi menn haft vitneskju um þessa fjármagnsflutninga en...

28. Desember 2008

BEINTENGING Í SVEITIR LANDSINS


...Meira en slæmt - afleitt - þótti mér að missa af þingi annan mann sem ég hef átt alllöng kynni við. Það er stórvinur minn Guðni  Ágústsson, Framsóknarmaður með stórum staf. Það er mikill sjónarsviptir að Guðna þegar hann nú segir skilið við Alþingi. Guðni var afgerandi í mannlífinu á Alþingi, setti á það sinn sterka svip og skreppur þingið saman við brotthvarf hans...

27. Desember 2008

HVERS VEGNA SEGJA ÓSATT?


...Eins og fram kemur greiddi Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar atkvæði gegn því að sérréttindi þingmanna, ráðherra og „æðstu embættismanna" yrðu afnumin og þeir settir undir sama fyrirkomulag og almennt gildir um starfsmenn ríkisins. Því nefni ég Árna Pál sérstaklega að ég sá heimasíðuskrif hans þar sem hann dregur upp allt aðra mynd og segir í ofanálag að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi beitt sér gegn afnámi sérréttindalaganna...

27. Desember 2008

ANDLEG OG VERALDLEG FÁTÆKT

Ísland er land allsnægta þar sem svo til allir hafa þak yfir höfuðið og raunverulegt hungur er enn afar fáheyrt. Flestir hafa atvinnu og aðrir njóta styrkja til þess að sjá sér og sínum farborða. Við verðum að leggjast á eitt að svo verði áfram og við eigum enn tækifæri til þess að halda okkar góða samfélagi í jafnvægi þrátt fyrir þá atburði sem hér hafa gerst undanfarið. Ég geri ekki lítið úr fjárhagslegu tjóni þeirra sem misstu hlutabréf eða bankabréf síðasta haust en hafið í huga að við komum án veraldlegra auðæfa í þennan heim og förum yfir móðuna miklu án þeirra. Þegar talað er um fátækt verður mér snögglega hugsað til tveggja augnablika í mínu lífi. Ég var staddur í Bóliviu, Suður Ameríku í október árið 1999 ásamt ...
Þórarinn Ívarsson 

25. Desember 2008

LÍKKLÆÐIN HAFA ENGA VASA

...Að undanförnu hafa borist fréttir af ofurgróða Finns Ingólfssonar. Finnur verður seint vændur fyrir óheiðarleika af sínum vinum. En hvenær er komið nóg? Græðgin gleypir sálina og spillir henni. Þegar þorri þjóðarinnar tapar, raka stóreignamenn gróða, gríðarlegum gróða. Hvað þessi dauðlegi maður hyggst gera við sinn mikla gróða er á huldu. Gunnar Dal heimsekingur kennir að þegar fjáraflamenn hafa sankað að sér 100 milljónum þá verði það auðurinn sem stýri lífi þeirra en ekki þeir sjálfir. Einu sinni fyrir langt löngu veðjuðu tveir landeigendur í gömlu ensku nýlendunum í Norður Ameríku um það hvort þræll sem gefið væri frelsi, kæmi aftur. Þeir sögðu við þann ófrjálsa...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ 

23. Desember 2008

STUÐNINGSMENN KVÓTANS VÍKI

...Þeir stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar sem treysta sér ekki til að aflétta ánauð fólks á Íslandi en hyggjast áfram styðja lénsherra kvótaauðsins eiga að stíga til hliðar fyrir næstu alþingiskosningar og viðurkenna í auðmýkt fyrir þjóðinni ótta sinn við fésýslumenn. Þetta á ekki síst við ykkur Vinstri græna sem ég hef þrátt fyrir allt vonast til að væruð boðberar nýrra gilda í íslensku samfélagi. Nú er sem aldrei fyrr tækifæri og ástæða til að reisa við gróandi mannlíf allt um kring landið með því að gefa fólkinu leyfi til að nýta þá auðlind sem rænt var af því með atbeina fulltrúa þess á Alþingi. Ekki tæki nema fáa mánuði að breyta sjávarplássunum í eftirsótt byggðarlög með vaxandi atvinnu, bjartsýni og hækkandi fasteignaverð. Þegar upp er staðið Ögmundur þá er gott og heibrigt ...
Árni Gunnarsson frá Reykjum

22. Desember 2008

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar: ÞAÐ ERU AÐ KOMA JÓL

....Stórkostlegar auðlindir umvefja okkur allt um kring, fiskurinn i sjónum er okkar eiginlega verðtrygging, náttúran heillar fólk um allan heim, og mannauðurinn sem hér býr er takmarkalaus ef við kunnum að gefa því gaum. Það gerum við hins vegar aldrei ef við líðum ósannsögli, óheiðarleika og loddaraskap hjá íslenskum ráðamönnum. Þau verða að fara að læra, þótt fyrr hefði verið, að fólkið í landinu krefst ekki bara áferðarfallegrar ímyndar, það krefst innihalds. Heiðarleiki er lykillinn að upprætingu spillingar, upplýsingar upp á borðið er lykillinn að betri stjórnsýslu, þátttaka allra er lykillinn að alvöru lýðræði. Og nú er ég búin að skrifa alltof langt mál hér í örpistli á heimasíðu. Það sem ég vildi sagt hafa er einfalt: Gleðileg jól kæru landar nær og fjær, íbúar Íslands af öllum uppruna og fleiri til, ekki síst þið Færeyingar! Megi gæfa og gleði fylgja ykkur öllum á nýju ári. Og megum við í framtíðinni bera happ til að velja heiðarleika sem fyrstu kröfu til allra okkar fulltrúa og stefnu til framtíðar....

22. Desember 2008

FJÁRMÁLATENGSL STJÓRNMÁLA-FLOKKA UPP Á YFIRBORÐIÐ

Var að lesa heimasíðuna þína eins og ég geri á hverjum degi og gladdist yfir því að sjá þú skyldir taka frá einn dag til þess að næra sjálfan þig.  Ég upplifði það nú í fyrsta sinn að sjá skýra stefnu VG sem birt var eftir flokksfund hjá ykkur nú nýverið...Ég er hissa á því að enginn fjölmiðill skyldi gera sér mat úr umælum Bjarna Harðasonar fyrrverandi framsóknarþingmanns sem hann viðhafði í sjónvarpsviðtali en þar sagði hann að menn innan Framsóknarflokkins úr viðskiptalífinu hefðu fyrirskipað að flokkurinn skyldi halda áfram stjórnarsamstarfinu eftir síðustu kosningar hvað sem það kostaði.  Í ljósi þessara ummæla fyndist mér að allir flokkar kæmu ...
Sigurbjörn Halldórsson

22. Desember 2008

MEÐ GÓÐRI KVEÐJU Á JÓLUM


Ég óska lesendum síðunnar gleðilegra jóla með ósk um farsæld á komandi ári. Í dag sendi ég út 200. fréttabréf síðunnar en að jafnaði eru fréttabréfin send þeim sem þess hafa óskað með sjö til tíu daga millibili... Vonandi verður það ár sem nú fer í hönd ár samstöðu. Á samstöðunni þurfum við nú að halda sem aldrei fyrr.

22. Desember 2008

ÁFRAM SÉRRÉTTINDI ÞINGMANNA OG „ÆÐSTU" EMBÆTTISMANNA


Einhver mesti loddaraleikur á Alþingi fyrr og síðar hefur verið viðhafður af hálfu Samfylkingarinnar að undanförnu um eftirlaunalögin svonefndu sem kveða á um sérréttindi þingmanna, ráðherra og „æðstu" embættismanna. Á lögunum er nú verið að gera breytingar án þess þó að sérréttindin séu afnumin. Engu að síður sagði formaður Samfylkingarinnar við atkvæðagreiðslu í morgun að verið væri að afnema lögin! Og að allt væri það Samfylkingunni að þakka! Við þá sem vilja vita hið sanna í þessu máli bendi ég á að...

22. Desember 2008

LAS HANN ALDREI STJÓRNAR-SKRÁNA?

...Bankarnir voru reyndar svo almennilegir að hlaupa undir bagga með ævisöguritara forsetans þegar greiðslurnar úr launasjóði rithöfunda voru á þrotum. Það varð nefnilega að koma þessum „stórmerkilega" súpermannbæklingi út. En hvað gerði ævipenni forsetans þegar hann var spurður um greiðslurnar frá bönkunum, hversu háar þær hefðu verið. Hann bar við bankaleynd! Ég spyr: er það forsetanum sæmandi að sætta sig við svona vinnubrögð og almennt að láta einkafyrirtæki fjármagna ævisögu sína? Einhvern tíma hefði það þótt saga til næsta bæjar á Íslandi en í spillingarbæli kapítalismans virðist ekkert heilagt nema hjónaband valdastéttarinnar og auðstéttarinnar.  Hverju hafa Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn að ...
Þjóðólfur

21. Desember 2008

LÝÐRÆÐI BYGGIR Á TJÁNINGARFRELSI

...Það má með sanni segja að Ingibjörg geti ekki talað fyrir hönd nema í mesta lagi 30% þjóðarinnar, en hvert einasta mannsbarn sem kemur saman á Austurvelli á hverjum laugardegi eða stóð í anddyri og utanhúss til að taka þátt í borgarafundinum í Háskólabíó, og mun koma saman á Arnarhóli, hvernig sem veirar, getur talað fyrir sína hönd og sinna eins og honum eða henni sýnist! Hvort sem Ingibjörg, ég eða aðrir séum sammála. Ef Ingibjörg heldur að hún geti gelt málefnalegt mál manna með því að segja að þeir hafi ekkert umboð til að tjá sig þá fer hún alvarlega villur vegar. Hún virðist misskilja og hundsa grundvöll lýðræðisins, sem sé ...
Úlfur

21. Desember 2008

HVENÆR ER FARIÐ YFIR STRIKIÐ?

...En ef viðkomandi er ehf.hf eða ohf. þá er bara skipt um kennitölu og málið er dautt (semsagt almenningur tekur við skuldinn). Og að öðru,af hverju er "farið yfir strikið"við að brjóta eina rúðu í fjármálaeftirlitinu,en þegar heilt hagkerfi rúllar yfirum þá er það ekki "neinum að kenna"og ekki farið yfir strikið. Og enn að öðru ég ...
Árni Aðalsteinsson 

21. Desember 2008

LÍMDUR VIÐ HALLGRÍM

Ég ákvað að njóta lífsins til fulls í dag. Drakk heitt súkkulaði, skrifaði á nokkur jólakort, hlustaði á Mozart og Ragga Bjarna, leit við í Kringlunni hjá þeim Sæma Rokk og Ingólfi Margeirssyni, gömlum vini og skólabróður, þar sem þeir undirrituðu nýútkomna bók sína. Síðan var það Hallgrímur okkar Pétursson, sálmaskáldið mikla. Í nýútkominni skáldsögu Úlfars Þormóðssonar um ævi Hallgríms -  sem ég reyndar var búinn að óska mér í jólagjöf - en gafst upp á að bíða - er dregin upp ljós mynd af aldeilis mögnuðum manni...Úlfar Þormóðsson þekki ég af góðu. Fáa menn hef ég eins gaman af að ...

20. Desember 2008

SKRÁÐ VÖRUMERKI?


Í umræðu á Alþingi í dag furðuðu margir sig á því hvernig það geti farið saman að ráðast gegn grunngildum jafnaðarmennsku og  kenna sig um leið við jöfnuð. Þetta gerir Samfylkingin, sem mér er sagt að heiti jafnframt  Jafnaðarmannaflokkur Íslands...Ég skal játa að ég fékk eftirþanka eftir að vekja á þessu máls í þinginu í dag og fletti því upp á heimasíðu Samfylkingarinnar hvað hún í raun heitir. Viti menn, hvergi fann ég minnst einu orði á Jafnaðarmannaflokk Íslands. Ég veit hins vegar að ég hef oft heyrt flokksmenn Samfylkingarinnar slá um sig með stóra jafnaðarmanna-nafninu, ekki síst fyrir kosningar.  Kannski hefur...

19. Desember 2008

EKKI ÖLLUM TREYSTANDI

Mig langar bara til að þakka þér fyrir allt sem þú ert að gera. Þú stendur vaktina betur og traustar en nokkur annar. Ég hef fylgst með þér á þingi og sá meðal annars ræðu þína um niðurskurðinn á mánudag. Hún bar af. Það sem er að gerast er hræðilegt. Ég trúi ekki öðru en að kosningar verði í vor því að þessi ríkisstjórn verður að fara frá. Þau eru aum. Það eru alltof fáir sem gera sér grein fyrir því hvað verið er að gera velferðarkerfinu. Þetta eftirlaunafrumvarp sem þau núna neyðast til að leggja fram segir allt sem segja þarf. Þau eru fljót að afgreiða niðurskurð á ...
Hildur og fjölskylda

19. Desember 2008

VERKALÝÐSHREYFINGIN AUGLÝSIR

afnamoj
Í dag birtist í blöðum auglýsing frá BSRB og ASÍ þar sem Alþingi er hvatt til þess að hafna nýrri sérrétindaútgáfu þeirra Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á eigin eftilraunum. Einsog flestum er kunnugt setti meirihluti Alþingis lög árið 2003 um sérstök vildarkjör sem fyrir „æðstu" embættismenn, sem svo eru nefndir, þingmenn og umfram allt ráðherra. Allar götur síðan hefur þessu verið kröftuglega mótmælt í þjóðfélaginu og að nokkru leyti innan þings. Vísa ég þar í eigin orð, frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur og nú síðast frumvarp frá þingflokki VG. Allt hefur komið fyrir ekki þótt varnir oddvita ríkisstjórnarflokkanna séu smám saman að bresta. Hins vegar ætla þau að reyna enn einu sinni...

17. Desember 2008

HVATT TIL ÁSKRIFTAR


Senn líður að því að ég sendi út 200. fréttabréf heimasíðunnar. Nokkuð er um að fólk, sem hefur óskað eftir því að fá send reglulega fréttabréf  mín, fái þau ekki. Ég vil af þessu tilefni hvetja hlutaðeigandi að skrá sig að nýju. Það má gera í til þess gerðum reit hér til hliðar. Þess má geta að slíkt fréttabréf var sent út fyrir fáeinum dögum. Hafi skráðir viðtakendur ekki fengið bréfið hvet ég þá til að skrá sig að nýju og að sjálfsögðu alla þá aðra sem áhuga hafa á að fá þessi bréf send sjálfkrafa. Ef þið síðan fáið ekki ...

16. Desember 2008

ÁLYKTUN ÖRYRKJA OG NÝJA SÉRRÉTTINDAÚTGÁFAN


Tvennt markvert gerðist í dag. Annað var að Öryrkjabandalag Íslands sendi frá sér ályktun með þungum áfellisdómi yfir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Síðan var hitt að þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde kynntu nýja sérréttindaútgáfu á lífeyriskjörum ráðherra, þingmanna og „æðstu embættismanna" sem svo eru oft nefndir. Annars vegar hefur ríkisstjórnin ákveðið að skerða lögbundnar hækkanir til aldraðra og öryrkja frá næstu áramótum að telja. Á hinn bóginn hefur hún ákveðið að láta undan þrýstingi um afslátt á eigin sérréttindum. En viti menn, það á ekki að gilda frá áramótum heldur frá og með 1. júlí næsta sumar! Öryrkjarnir skulu skertir strax og af fullum þunga, en Geir og Ingibjörg ....

16. Desember 2008

ÍHALDIÐ ALLTAF MEÐ STJÓRNAR-MYNDUNARUMBOÐ?

...Hvort sem að Samfylkingin slítur stjórnarsamstarfinu við Íhaldið eða Íhaldið slítur stjórnarsamstarfinu við Samfylkinginguna er þá hættan ekki alltaf sú að Geir H Haarde hafi stjórnarmyndunarumboðið? Alla vega á ...
Jón Þórarinssson 

15. Desember 2008

ÁSKORUN TIL ÚTFLYTJENDA Á ÓUNNUM FISKI

...En hvað getum við sjálf gert til að launa greiðann fyrir bylmingshöggið? Jú við getum og biðjum alla útflytjendur á ferskum fiski á erlenda markaði að stöðva hann nú þegar timabundið og selja til fullvinnslu á innlendum markaði og hámarka verðmæti hvers kg enda er auðlindin viðkvæm þótt aukinn þorskur sé í augsýn. Hvað mun gerast Bretlandi-Cuxhaven-Hull-Grimsby og fleiri löndunarstöðum? Jú, ég minnist þáttar sem Ólafur Sigurðsson fyrrum fréttamaður á RUV átti við borgarstjóra þessara borga og upplýstu þeir að rúmar 2 milljónir manna hefðu beint og óbeint atvinnu vegna fisks af Íslandsmiðum og hvað gerist berist hann ekki? Bara í aðraganda hryðjuverkalaganna í Bretlandi gekk öflugur þingmaður á fund Melvins King ...
Þór Gunnlaugsson

15. Desember 2008

SEKTA Á HINA SEKU

Ég mundi vilja sjá þig leggja fram frumvarp um stórauknar sektir við brot á lögum sem Útrásarvíkingarnir hafa sannanlega verið að brjóta, t.d. brot á hlutafélagalögum, svo sem FL grop og Sterling og svo Exista núna þar sem litlir hluthafar eru rúnir.Sektir t.d. 200 til 600 miljarðar. Svo mættu koma ný lög um valdníðslu valdhafa. Þar er af nægu að taka. Að lokum: húseignir fólks eru líka lífeyrir.
Eyjólfur Jónsson

15. Desember 2008

FRÁBÆR BJÖRK


...Björk og félagar vinna nú að því að vekja skapandi umræðu til að örva nýsköpun. Stóra málið er ekki hvort allir séu sammála öllu sem frá hópnum kemur enda held ég að enginn ætlist til þess. Hugsunin er nefnilega sú að varpa ljósi á málin frá ýmsum hliðum, leiða fólk og hugmyndir saman og skapa þannig nýja nálgun.
Rauður þráður í öllu því sem Björk og félagar taka sér fyrir hendur er hins vegar þessi: Virðing fyrir umhverfinu. Sjá http://www.nattura.info/ .Það var því engin tilviljun að á vegum hópsins kæmu hingað til lands öflugir talsmenn sjálfbærrar þróunar í Bandaríkjunum nú um stundir, þeir Paul Hawken og John Picard... en það var Sigurður Gísli Pálmason sem hafði millligöngu um...

15. Desember 2008

ER STJÓRNUM LÍFEYRISSJÓÐA TREYSTANDI?

...Nú er ljóst að lífeyrissjóðir töpuuðu verulegum fjármunum á bankahruninu og kannski á ýmsu öðru. Er sjóðsstjórnum treystandi fyrir öllu þessu fjármagni? Mín skoðun er að svo sé ekki. Greiðslur í lífeyrissjóði eru í rauninni dulbúinn skattur til að dekka sjálfsagðar launagreiðslur til öryrkja og eftirlaunamanna. Væri ekki eðlilegra að ríkið rukkaði skattborgarana um aukaskatt sem þessu næmi (sama skipting milli launþega og launagreiðenda og verið hefur) svo við vitum nákvæmlega hver skattbyrðin er? Þá væri ein yfirstjórn yfir þessum málaflokki í stað margra lífeyrissjóðsstjórna og margra sjóðsstjóra sem mér skilst að hafi jafnvel hátt í 30 miljónir í ...
Jóhannes T Sigursveinsson

15. Desember 2008

FYRIR HVERJA STENDUR FRÉTTASTOFA RÚV VAKTINA?


...En mærðarvellan sem flóði um alla netmiðlana var með ólíkindum þótt verstar væru fréttir RÚV. Forræðishyggja í dularklæðum mannréttinda.
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi, sýndi allan tímann hógværð og kurteisi. Baðst afsökunar fyrir mistök sín. Á þessu var reyndar hamrað í fréttum RÚV. En hvar er afsökunarbeiðni fréttastofu RÚV gagnvart fólki sem greinilega var misboðið, samanber yfirlýsingu sem fjölskylda stúlkunnar og hún sjálf birti eftir að tíundað var í Ríkisútvarpinu að borgarfulltrúinn hefði beðist afsökunar. Í yfirlýsingu fjölskyldunnar kemur fram að borgarfulltrúinn hafði aflað allra tilskilinna leyfa þótt honum hefðu orðið á mistök sem hann reyndi að leiðrétta og fjölskyldan hafði fullan skilning á.
sbr. http://smugan.is/frettir/frettir/nr/360 

14. Desember 2008

FRÉTTIR EÐA STUNDIN OKKAR?

...Framundan eru fyrirsjáanleg gjaldþrot þúsunda heimila og fyrirtækja og hörmungar sem við getum varla gert okkur í hugarlund nú. Þrátt fyrir þetta  virðist  sem  fréttastofa Rúv (og fleiri miðlar) telji mikilvægasta atriðið í umfjöllun um mótmæli almennings, hvort mótmælin séu "eðlileg", hvaða fólk þetta sé, hvað ráðamönnum nú finnist um aðgerðir mótmælenda og svo framvegis. Semsagt, allt gert til þess að gera mótmæli og ekki síður mótmælendur tortryggileg. Þetta toppaði nú þegar Vigdís Hjaltadóttir kommenteraði á flokksráðsfund VG í fréttum - að "hér kannast maður nú við mörg andlit af Austurvelli"!!! Semsagt, ekkert að ...
Kristófer

11. Desember 2008

TRAUSTS - VÍSITALA DESEMBER-MÁNAÐAR

..Lánstíminn vekur upp þær spurningar hvort taka eigi húsnæðislán við fæðingu eða færa eftirlaunaaldurinn upp í hundrað ár. Seinni kosturinn krefst þess reyndar að auka lífslíkur landsmanna en heilbrigðisráðherra ætti ekki að verða skotaskuld úr því þótt hann hafi ekki enn hitt félaga Gaddaffi eins og gefið var í skyn hér á síðunni með falsaðri mynd félaga Ögmundar. Á þann sem trónir í næstefsta sætinu í traustinu er varla hægt að minnast á ógrátandi...
Þjóðólfur

9. Desember 2008

ÆTLUM VIÐ AÐ BORGA NEFSKATT FYRIR ÁRÓÐUR RÍKIS-STJÓRNARINNAR?

Ég var að lesa viðtalið við þig á Smugunni og er ég þér sammála um margt. Sérstaklega staðnæmdist ég við það sem þú segir um RÚV ohf. þar er þörf á gagngerum breytingum. Einsog þú Ögmundur varð ég hugsi þegar formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins voru skyndilega mætt í laugardagsþátt Hallgríms Thorsteinsson og sátu þar fyrir svörum, eða svo vitnað sé í ...
Sunna Sara 

9. Desember 2008

VARAÐ VIÐ FASISMA Á SMUGUNNI


...Þegar ræðumenn segja að öll „stjórnmálastéttin“ eigi að víkja fatast þeim flugið. Þeir sem alhæfa gegn stjórnmálum fara óþægilega nærri Mússólíní. Í því ástandi sem nú ríkir í samfélaginu hafa margar þjóðir sokkið ofan í einhvers konar fasisma. Það er hryllingur og við verðum að vanda okkur svo hér byggist upp eitthvað betra. Reiðin þarf að verða til þess að lýðræðið eflist á allan hátt, að völd og áhrif fólks á umhverfi sitt og samfélag aukist og styrkist. En þá þurfum við líka að tala af sanngirni. Það bera ekki „allir stjórnmálamenn“ ábyrgð á ástandinu, þetta er ekki öllum stjórnmálaflokkum eða stefnum að kenna, það er einfaldlega rangt. Sumir hafa talað fyrir auknu lýðræði og varað við ástandinu sleitulaust öll hin síðari ár. Þá vantaði fleiri raddir í hópinn, við vorum hrópandinn í eyðimörkinni....

9. Desember 2008

UM FÖLDU REIKNINGANA Í LUX OG FLEIRA

Ég er afar sáttur að loksins komi fram tillögur VG um hvað beri að gera á næstunni en ég ber enn ugg í brjósti yfir ummælum okkar færustu íslensku fræðimanna sem kenna við háskóla í Englandi og USA. Annar þeirra var fenginn til skrafs og ráðlegginga fyrir forsætisráðherra en ekkert meir frekar en hinn sem látinn var hætta störfum en það sem ég ætlast til að VG hugleiði í þessari viku er þingmannafrumvarp um að annar þessara tveggja virtu sérfræðinga eða aðrir álíka menntaður verði skipaður seðlabankastjóri og formaður bankaráðs og þeir verði því 4 alls og þessi núningur sé því úr sögunni. Þarna er aðeins um ...
Þór Gunnlaugsson

7. Desember 2008

HUGVEKJA Á FULLVELDISDEGI

...Ég var stödd í verslunarmiðstöð í Malmö þar sem ég áhvað að fá mér lítinn skyndibita og gek inn á lítinn veitingastað og pantaði mat við diskinn, þá segir afgreiðslumaðurinn sem auðheyranlega var ekki sænskur en mjög hress og glaður "ertu dönsk?" Nei svara ég ég er íslensk. Þá var eins og ég hafi tilkynnt honum andlát því hann varð mjög alvarlegur og sorgmæddur á svipinn og sagði mjög hátt og skýrt á sinni sænsku "Ísland gjaldþrota, Ísland gjaldþrota". Allir sem þarna voru heyrðu þetta og ég óskaði mér niður úr gólfinu og reyndi að skipta um umræðuefni en afgreiðslumaðurinn var bersýnilega áhugasamur um þetta gjaldþrot svo ég neyddist til að svara. Ekki gat ég varið þetta gjaldþrot með neinu móti og síst af öllu þegar Íslendingar halda áfram með sama fólkið í brúnni og þeim sem söktu skútunni. Niðurlæging mín var algjör. Og til að bjarga öllu á að ganga í EU. Ein skyndilausnin enn. Ég man ekki betur en...
Unnur

7. Desember 2008

Jón Torfason skrifar: LAUNALÆKKUN ÆÐSTU EMBÆTTIS-MANNA

Ríkisstjórn þeirra Geirs og Ingibjargar hefur boðað lagasetningu svo hægt sé að lækka laun æðstu embættismanna ríkisins „tímabundið," þ.e. þeirra embættismanna sem taka laun samkvæmt úrskurði Kjaradóms. Þetta virðist vanhugsað eins og svo margt annað sem frá þeim hefur komið þessa haustmánuði, enda aðallega ætlað sem einhvers konar sykur á þá beisku pillur sem landsmönnum er ætlað að gleypa á næstunni, tilraun til að telja fólki trú um að ríkisstjórnin ætli að láta þá efnameiri bera sínar byrðar eins og lýðinn. En hér er þó ýmislegt að athuga. Í fyrsta lagi nær þessi „launalækkun" aðeins til frekar fámenns hóps. Ekki er hreyft við öðrum auðmönnum í þjóðfélaginu og virðast ekki neinar áætlanir hafðar upp í þá veru. Tekið er fram að lækkunin sé tímabundin, gildi kannski í tvö til þrjú ár. Þá verða laun þeirra „æðstu" hækkuð aftur. Ekki er ljóst hvort þeir muni...

7. Desember 2008

LES ALLAN PÓST

Að senda skilaboð til síðunnar en ekki til Ögmundar er undarlegt! Er einhver sem svarar fyrir Ögmund sjálfan? Til hvers að vera með spurningar til Jóns Jónssonar? Þó að það sé eftirlitsmaður með síðunni þá má hann svara spurningum en Ögmundur les yfir og samþykkir póstinn og sendir sem persónulegan póst sem er frábært fyrir viðtakanda. Legg til að þið breytið þessu.
Með kveðju.
Helgi

7. Desember 2008

VALDAGRÁÐUGT EVRÓPUSAMBAND

Ég bið alla Íslendinga að kynna sér Lissabon sáttmálan, sem verið er að reyna að koma í umferð á næsta ári. Ef sá sáttmáli kæmist inn þá þyrfti ekki nema nokkur hryðjuverk í Evropu. Með þeim afleiðingum að meiri hlutinn myndi kjósa yfir sig hryðjuverkalög og valdið myndi færast til Evrópusambandsins fyrir öll aðildarríkin. Þetta fólk er ekkert vitlaust, bara valdagráðugt. Hér er brot úr grein sem ég rakst á netinu...
Sveinn Hrafnsson

7. Desember 2008

FRAMLAG PÁLS BALDVINS BALDVINSSONAR TIL ÞJÓÐFÉLAGSUMRÆÐU

Birtist í Fréttablaðinu 06.12.08.
FB logoDanski rithöfundurinn Hans Scherfig segir í einni bóka sinna að til séu þeir sem skrifi um lífið, svo  hinir sem skrifi um þá sem skrifa um lífið. Þá megi ekki gleyma þeim sem lifa lífinu. Páll Baldvin Baldvinsson  hefur sérhæft sig í kategóríu tvö. Hann birtist þjóðinni fyrst og fremst sem sá sem fjallar um  þá sem skrifa um lífið. Sannast sagna finnst mér oft gaman að hlusta á Pál Baldvin, til dæmis í Kilju Egils Helgasonar en sá þáttur er í uppáhaldi hjá mér. Þar er Páll Baldvin fastagestur og oft með skemmtilegar vangaveltur um bókmenntir. Þess vegna þótti mér heldur miður þegar hann sá ástæðu til að gefa mér hrapalega falleinkunn fyrir framgöngu mína í ...

6. Desember 2008

VARAÐ VIÐ EINFÖLDUNUM

Þegar þú talar um að fólkið fái að kjósa um aðild að esb þá held ég að þú sert að einfalda hlutina heldur mikið. Þú verður að athuga það að cirka 70 -80% þjóðarinnar veit ekki hvað það myndi fara að kjósa um og það er voða gott að láta þjóðina kjósa um þetta og ef að það yrði samþykkt og síðan kæmi i ljós eftir einhvern tíma eftir að við göngum í esb að allt se ómögulegt þá er bara hægt að segja ...
Jóhann Þ. Sigurðsson

6. Desember 2008

VILJA KOMAST HJÁ RANNSÓKN

Yves Leterme forsætisráðherra Belgíu reiknar með að ákvörðun um sölu Kaupþings í Luxemborg muni liggja fyrir á komandi dögum. Leterme segir viðræður í gangi við kaupanda sem hafi verulegan áhuga á kaupunum. Ofangreind frétt er í fjölmiðlum í dag og því alveg ljóst að íslenskum rannsóknarnefndum mun ekki gefast kostur á að finna þau skjöl um bankahrunið sem þar eru geymd og ekki furða þótt keppendur um að kaupa séu margir og hugsanlega einhverjir sem eiga hagsmuna að gæta að öllu sé pakkað saman í öruggt skjól ...
Þór Gunnlaugsson

6. Desember 2008

FINNST GOTT AÐ VERA Í EU

Elskurnar mínar: Íslendingar: Komiði til okkar í EU. Hér er gott og öruggt að vera!...
Inga Birna Jónsdóttir

6. Desember 2008

KJÓSUM UM NATÓ

nato animate
...Nú er blessunarlega mikið rætt um mikilvægi lýðræðisins.  Þannig eigi að láta þjóðina skera úr um það í atkvæðagreiðslu hvort halda skuli með Ísland inn í Evrópusambandið eða standa utan þess. Ég er andstæðingur aðildar að Evrópusambandinu og hefði reyndar aldrei viljað að við undirgengjumst EES skilmálana á sínum tíma. Á hinn bóginn tel ég einu réttu leiðina til að útkljá deilumál af þessari stærðargráðu vera þá að skjóta þeim undir þjóðaratkvæði. Hvers vegna ekki aðildina ð NATÓ? Mér finnst liggja í ...

6. Desember 2008

MÆLIR MEÐ NORÐLENSKUM UPPLESURUM

Það er stundum gott að hlæja í öllu krepputalinu. Ég var að skrá á bloggið mitt nýja sögu sem sýnir hvað hysterían getur blindað alla skynsemi hjá manni. Sagan er algerlega sönn. Hún er svona: "Allar byssur eru nú á hálfvirði! Eldri maður og kunningi minn á Suðurlandi, sem ég tala stundum við í síma, sagði mér í fyrradag að hann hefði verið að heyra það í fréttum að byssusala hefði tekið gríðarlegan kipp síðasta mánuðinn. Hann sagði að þetta gerðist alltaf þegar harðnaði á dalnum eins og nú. Við vorum að velta þessu fyrir okkur nokkuð. Ég var að spá í það hvort að menn væru að auka veiðar til búdrýginda í kreppunni en kunningi minn taldi það af og frá. Í flestum tilfellum væru menn að...
Jóhann Frímann

5. Desember 2008

ÞANNIG LEYSIST KREPPAN

Nú þarf að gera nýja þjóðarsátt. Sátt milli fjármagnseigenda og skuldara. Sátt milli ríkis og atvinnulífs. Sátt milli atvinnurekenda og almennings.
1. Það þarf að deila kostnaðinum við kreppuna í tvennt milli fjármagnsins og þeirra sem þurfa að standa undir skuldunum.
2. Það þarf að efla innfrastrúktúrinn í landinu, heilsugæslu og samgöngur, tvöfalda hringveginn og malbika hann allan á tveimur árum.
3. Það þarf að semja um hámarkslaunamun innan fyrirtækja.
Þannig...
Hreinn K.

4. Desember 2008

KRAFAN ER LÝÐRÆÐI

Birtist í DV 03.12.08.
...Hinn stjórnarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, hefur talsverða æfingu í að vanvirða lýðræðið. Ef eitthvað hefur einkennt valdatíma Sjálfstæðisflokksins allar götur síðan 1991, þá er það ofríki. Þannig hefur einkavæðing og stuðningur Íslands við stríðsrekstur heimsvelda einkennst af því að ákvarðanir hafa verið á hendi fárra einstaklinga sem farið hafa sínu fram á bak við lokuð tjöld. Ef sala Landssímans hefði verið borin undir þjóðaratkvæðagreiðslu ættum við hann ennþá. Ef stuðningur við Íraksstríðið hefði verið borinn undir þjóðaratkvæði hefði Ísland aldrei verið sett í flokk „viljugra" þjóða, en það var vinnuheitið sem notað var um undirgefnustu stuðningsþjóðir Bush og Blairs í Íraksstríðinu. Á sínum tíma skrifuðu tugþúsundir manna undir ákall um þjóðaratkvæðagreiðslu um EES-samninginn. Sú krafa var hunsuð af Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki sem sátu saman ...

30. Nóvember 2008

UM RÖGGSEMI OG SKORT Á HENNI

...Það vakti sérstaka athygli mína, frétt á mbl.is, þar sem fram kemur að Steingrímur J. tók upp á Evrópuróðsþinginu, beitingu Breta á hryðjuverkalöggjöf gegn Landsbankanum í Bretlandi. Segir þetta ekki nokkuð um röggsemi stjórnvalda yfirleitt, er ekki Guðfinna Bjarnadóttir formaður íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins? Ellert Schram varaformaður?
Gísli Árnason

30. Nóvember 2008

AUÐVITAÐ KJÓSUM VIÐ UM EVRÓPUSAMBANDIÐ


...Þegar lýðræðið truflar valdhafa þá eiga þeir að víkja. Lýðræðisleg niðurstaða á að ráða  - í öllum málum. Líka um Evrópusambandið. Að sjálfsögðu. Einhliða áróður hagsmunaafla um Evrópusambandsaðild er farinn að þvælast fyrir upplýstri umræðu og ákvarðanatöku um framtíðina á Íslandi. Þá er bara ein leið fær. Við kjósum um hana. Hvað sem líður efasemdum mínum um ESB-aðild - sem reyndar fara vaxandi - er ég eindregið á því, að málið þurfi að fá lýðræðislega niðurstöðu. Forræðishyggja þeirra sem ekki treystu þjóðinni til að kjósa um EES-samninginn, og einhliða áróðurinn sem alla tíð hefur fylgt þeim gjörningi eins og öðru, verður að vera liðinn undir lok. Ef það er eitthvað sem þarf að treysta í íslensku samfélagi þá er það ...

30. Nóvember 2008

Páll H Hannesson skrifar: EKKI RÉTTI TÍMINN FYRIR ESB-UMSÓKN

Lausnarorðið á Íslandi þessa dagana virðist fyrir mörgum vera aðeins eitt; Evran. Það á jafnt við seka og saklausa, þá fáu sem orsökuðu hrunið og hina mörgu sem eru fórnarlömbin. Hinir seku kenna evruleysi landsins um ófarir eigin fyrirtækja og fela eigin vanhæfni í leiðinni, hinir saklausu eru margir tilbúnir að grípa hvaða hálmstrá sem býðst ef það leiðir okkur út úr ógöngunum. Það virðist stafa af þessu lausnarorði ljómi sem birgir mönnum sýn á annað. Þar sem forsenda upptöku evrunnar er að Ísland gangi í Evrópusambandið þá virðist samkvæmt sömu nauðhyggju óhjákvæmilegt að sækja um inngöngu. Það auðveldar þeim lífið sem gera sér pólistískan mat úr þessu ástandi, ala á Evru-trúnni öllum stundum og hafa fram að þessu fitnað eins og púkinn á fjósbitanum. En látum liggja milli hluta hversu ...

29. Nóvember 2008

HEFÐI ÁTT AÐ BYRJA AÐ NUDDA FYRR?

DV greindi frá því á dögunum að starfsmenn Fjármálaeftirlitsins hefðu fengið nudd í vinnunni í byrjun október, á þeim dögum þegar bankarnir hrundu hver á fætur öðrum. Ástæðan var sú, að sögn talsmanns FME, að starfsmennirnir hefðu unnið nótt sem nýtan dag vegna þeirra aðstæðna sem komið höfðu upp á fjármálamarkaði.En spyrja má; hefði ekki átt að bjóða upp á þessa þjónustu fyrr, 5-10 mínútna axlanudd á dag, ef það hefði mátt verða til þess að Fjármálaeftirlitið sinnti betur þeim verkefnum sem því bar fyrir hrunið...
Þjóðólfur

28. Nóvember 2008

NIÐUR MEÐ VEXTINA!

Birtist í DV 18.11.08.
DV...Ég hef flutt frumvarp á þingi um að bann verði lagt við því að hafa lán í senn verðtryggð og með breytilegum vöxtum. Enn sem komið er hefur það ekki fengið góðar undirtektir. Spennandi verður að sjá hver verða örlög frumvarps sem lagt var fram á þingi í vikunni til varnar lántakendum. Þar er kveðið á um bann við því að lagðir séu hærri vextir ofan á verðtryggð lán en sem nemur 2%. Ég minnist þess þegar verðtrygging var tekin upp fyrir nærri þremur áratugum að þáverandi Seðlabankastjóri, Jóhannes Nordal, sagði að vextir á verðtryggðum lánum ættu aldrei að vera meiri en nemur þessu hlutfalli. Ungur maður sem þá var að hasla sér völl í fjármálalífinu með stofnun fyrirtækisins Kaupþings tók þá mjög í sama streng. Sá maður heitir Pétur H. Blöndal og er nú formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis. Fróðlegt verður að sjá hvort hann er enn...

28. Nóvember 2008

ÖGMUND OG STEINGRÍM Á NÁMSKEIÐ

...Bið þig um birtingu á þessu bréfi á þinni heimasíðu fyrir aðra VG. Núna stend ég flokkslaus á krossgötum að íhuga hvar ég leiti skjóls og fylgdist því með utandagskrárumræðum á Alþingi í gær. Ég verð bara að segja það hreint út að ég tel VG hafa tapað fylgi hjá almenningi vegna ofstækis og í sumum tilfellum óafsakanlegs munnsöfnuðar formanns flokksins Steingríms J og Ögmundar Jónassonar og efni þeirra farið ofangarð og neðan fyrir þá háttsemi. Ég mundi hreinlega krefjast þess af mínum forystumönnum að ...
Þór Gunnlaugsson

28. Nóvember 2008

HVERS VEGNA BEITTU BRETAR HRUYÐJUVERKA-LÖGGJÖFINNI?

Ég var að fletta í lagasafni Alþingis um daginn til að athuga hvort bankahneykslið tæki ekki útfyrir allan þjófabálk, og rakst á eftirfarandi grein í almennum hegningalögum nr 19 frá 12 febrúar 1940. 88. gr. Hver, sem opinberlega í ræðu eða riti mælir með því eða stuðlar að því, að erlent ríki byrji á fjandsamlegum tiltækjum við íslenska ríkið eða hlutist til um málefni þess, svo og hver sá, er veldur hættu á slíkri íhlutun með móðgunum, líkamsárásum, eignaspjöllum og öðrum athöfnum, sem líklegar eru til að valda slíkri hættu, skal sæta ... fangelsi allt að 6 árum Þetta er í kaflanum um landráð... Þannig að ég spyr núna; Hver sagði hvað sem varð til þess að Bretar beittu hryðjuverkalöggjöfinni á Íslendinga? Það skal enginn segja mér að það hafi ekki verið "fjandsamlegt tiltæki"
Jón Guðmundsson

28. Nóvember 2008

ÞÖRF Á FLEIRI FLOKKUM?

...Hins vegar er spurning hvort að nýr stjórnmálaflokkur sem sprytti upp úr grasrótinni myndi einungis taka fylgi frá VG og hjálpa þannig Sjálfstæðisflokknum að sitja við völd í framhaldinu. Hefur þú einhverja skoðun á þessu?
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir

27. Nóvember 2008

GEIR OG INGIBJÖRG MEÐ NÝJA SÉRRÉTTINDAÚTGÁFU

Birtist í Morgunblaðinu 26.11.08.
MBL  - LogoÞað var lítil reisn yfir því af hálfu oddvita ríkisstjórnarflokkanna að velja Þjóðmenningarhús Íslands til að kynna nýja sérréttindaútgáfu af eftirlaunalögunum illræmdu. Allar götur frá því ríkisstjórnin var mynduð hefur verið beðið eftir því að ríkisstjórnin stæði við fyrirheit í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um breytingu á þessum lögum. En aldrei kom frumvarpið. Í 20 mánuði hefur þjóðin beðið eftir því að ríkisstjórnin mannaði sig upp í að afnema eigin sérréttindi. Nú þegar lagabreytingin er kynnt kemur fram að ráðherrarnir tíma ekki að draga úr eigin forréttindum meira en svo að áfram verða þeir með ...

26. Nóvember 2008

UM SAMFYLKINGU, FRAMSÓKN, SEÐLABANKA OG...

Ætlar Samfylkingin að drepa sig endanlega í bandalaginu við íhaldið Ögmundur? Ég hef nú frekar verið hallur undir að þið VG menn og Samfylkingin tækjuð við völdunum hér í landinu eins og þú veist og helst með Framsókn, en nú er mér að verða nokkuð mikið brugðið með þetta. Samfylkingin situr sem fastast í ríkisstjórninni og fellir það inn á þingi að þjóðin fái að kjósa um ástandið. Ég hef nú orðið af því áhyggjur að hún dugi ekki með ykkur í almennlegan meirihluta ef hún eyðileggur sig á því að halda Sjálfstæðisflokknum uppi og áfram hér við völd í landinu þegar næstum öll þjóðin vill breytingar. Er ekki hægt að koma vitinu fyrir þau þarna í Samfylkingunni svo þessi möguleiki tapist ekki að mynda annars konar ríkisstjórn? Svo er það eitt annað þarna með stóra lánið hjá gjaldeyrissjóðnum. Er það virkilega rétt að ...
Jón frá Læk

25. Nóvember 2008

GERIÐ BETUR GREIN FYRIR STEFNUNNI

Enn vil ég skipta mér af síðunni þinni. Nú hafa einhverjir þingmenn stjórnarinnar sagt að þið stjórnarandstaðan, og þá hefur nú ábyggilega aðallega verið meint þið í Vinstrihreyfingunni, hefðuð engar hugmyndir, engar björgunarhugmyndir ef þið kæmust til valda. Ég veit að það er rangt og mér finnst mikilvægt að þið þingmennirnir okkar komi frá ykkur hvað þið viljið gera til dæmis með allsherjar yfirlýsingu, og að það komi fram hvað þið í VG eruð tilbúin að gera. Ég er sammála ykkur að ef ...
Ágúst Valves Jóhannesson

25. Nóvember 2008

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: ÖGRUN

...Afstaða, sem er félag fanga, segir að skýringar lögreglu á handatöku Hauks geti ekki verið neitt annað en fyrirsláttur. Fangelsi eru yfirfull og á þriðja hundrað manns á biðlista eftir afplánun. „Félagið gefur þær skýringar á staðhæfingum sínum að í því ástandi sem nú ríkir í fangelsismálum, þar sem fangelsin séu stútfull, sé engin hætta á að þeir sem skulda sektir séu teknir með sama hætti og Haukur enda bíði menn með dóma fyrir miklu alvarlegri brot afplánunar". Hvers vegna var Haukur þá handtekinn daginn fyrir fjöldamótmæli? Töldu stjórnvöld manninn svo hættulegan að...

24. Nóvember 2008

FJÖLMENNUM Á INGÓLFSTORGIÐ Í REYKJAVÍK Í DAG!

BSRB_Verjum-velf_nov_2008ltá Ingólfstorgi í dag, mánudaginn 24. Nóvember, kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar...Í fréttatilkynningu sem boðendur fundarins á Ingólfstorgi í dag, sendu frá sér segir m.a.: "..Íslenskt samfélag stendur nú á krossgötum. Við teljum að grundvöllur hins nýja Íslands verði að byggjast á samkennd og sameiginlegri ábyrgð okkar hvert á öðru. Það að vega að núverandi velferðarkerfi er ekki fyrsta skref á þeirri leið. Verjum því velferðina sem fyrsta áfanga að bættri framtíð. Við krefjumst síðan lýðræðislegra vinnubragða stjórnvalda, opinnar stjórnsýslu og upprætingu spillingar."

24. Nóvember 2008

MORGUNBLAÐIÐ OG RÍKISSJÓNVARPIÐ BRUGÐUST


Ósköp var dapurlegt að lesa laugardagsútgáfu Morgunblaðsins og verða vitni að því hvernig blaðið reyndi að draga ríkisstjórnina að landi í eftirlaunamálinu. Tilefnið var fréttamannafundur þeirra Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um fyrirhugaðar breytingar á eftirlaunalögunum svokölluðu. Áfram ætla ráðherrar sér helmingi hærri  lífeyrisávinnslu en best gerist hjá almennum starfsmönnum ríkisins! Morgunblaðið flennir hins vegar yfir forsíðu: Ekki sömu sérkjör og á innsíðu er fyrirsögnin ...Morgunblaðið og reyndar einnig fréttastofa Sjónvarps brugðust í þessu máli. Það er ekki í fyrsta sinn sem fréttastofa Sjónvarpsins bregst þegar þessi sérréttindalög eru annars vegar. Það er eins og ...

24. Nóvember 2008

Á AÐ AFNEMA VÍSITÖLUBINDINGU TÍMABUNDIÐ?

Ömurlegt þótt mér að hlusta á þig mæla verðtryggingunni bót. Lagðist marflatur undir yfirklórið í Jóhönnu. Verðtryggingin étur upp allan eignahlut í húsnæði fólks sem verið hefur að kaupa sér húsnæði síðustu tíu árin eða svo og ekki langt í að húsnæði okkar verði yfirveðsett ef fram fer sem horfir. Allt rennur þetta inn í höfuðstólinn Þetta er ekkert annað en eignaupptaka. Hvað með millileik eins og að ...
Tumi Kolbeinsson

23. Nóvember 2008

BURT MEÐ ÓSTJÓRNINA!

Ég les alltaf síðuna þína og mér finnst hún gefa raunsæja mynd af ástandinu á landinu bláa.Ég er steinhissa á því, að ríkisstjórn, sem hefur gert þjóðina gjaldþrota skuli ekki annað hvort segja af sér, sem væri mannsæmandi, eða þá hreinlega verða rekin.Óstjórnin sýnir, að þörf er á fólki, sem kann sitt "fag."
Krafa fjöldans á Austurvelli virðist ekki hafa áhrif á þessa óstjórn. Við, sem höfum smávegis eftirlaunahýru á Íslandi, en búum erlendis verðum líka fyrir þessum ósköpum vegna gífurlegrar gengisfellingar krónunnar. Gefið óstjórninni frí og fáið hæfara fólk til að bjarga því, sem ...
Inga Birna Jónsdóttir

23. Nóvember 2008

ÚTLENDUR HERNAÐAR-SÉRFRÆÐINGUR STÝRIR GEIR!

Tók engin eftir fréttinni 21. þessa mánaðar að forsætisráðherra vor Geir Hilmar hafi erlendan hersérfræðing sér við hlið til að leiðbeina sér um framkomu sína gagnvart íslensku þjóðinni? Að það verði að sína Íslendingum festu, sína öryggi og láta þjóðina ekki komast upp með að "ybba sig"? Sem sé að forsætisráðherrann hafi útlenskan hermálasérfræðing til að segja sér fyrir verkum, hvernig hann eigi að koma fram við íslensku þjóðina. Jafnvel að hann hafi kennt Geir hegðun ...
Úlfur

23. Nóvember 2008

ÞETTA VERÐUR AÐ STÖÐVA!

Samkvæmt fréttum stöðvar 2 nú í kvöld 23.11 voru þær skelfilegu fréttir að fyrrum stjórnarformaður Kbbanka Sigurður Einarsson væri með öfluga fjárfesta að baki sér til kaupa á útibúinu í Luxemburg....Þetta má bara ekki ske og skýlaus krafa almennings að ríkisstjórnin sendi skilanefnd og endurskoðendur strax til Luxemburgar og hefði rannsókn þegar í stað burtséð hvaða skoðun Luxarar hafa á því þar sem almenningur á skýlausa kröfu á því. Treysti VG til að taka málið upp þegar á morgun á Alþingi og fá þar skýr svör forsætisráðherra.
Þór Gunnlaugsson

23. Nóvember 2008

GÓÐ FJÖLMIÐLAUMRÆÐA Í DAG


Hlutverk fjölmiðla er af tvennum toga: Í fyrsta lagi að upplýsa. Einsog Agnes Bragadóttir gerir í Mogganum í dag. Jón Ásgeir var ekki ýkja sannfærandi í fréttum Sjónvarpsins þar sem hann var beðinn um að svara fyrir tugmilljarða lánasukk. Hann sagði að þörf væri á að kanna hvernig fjölmiðill hefði fengið aðgang að lánabók Glitnis! Er það svo? Að málið snúist um leynd og leka? Auðvitað á almenningur rétt á öllum upplýsingum, sjá allar lánabækur, allar tilfærslur. Er það ekki almenningur - við öll - sem eigum að borga? ... Í öðru lagi eiga fjölmiðlar að leiða fram gagnrýnin sjónarmið. Það heppnaðist vel í Silfri Egils í dag. Margs urðu áhorfendur vísari. Sumum sjónarmiðum sammála, öðrum ekki.  Einsog gengur. Gaman að sjá ný andlit. Hóphyggja undangenginna ára er...

23. Nóvember 2008

VANTRAUST RÆTT Á ALÞINGI Á MORGUN


Samkomulag náðist um það í dag að á morgun fari fram umræða á Alþingi um vantraust á ríkisstjórnina. Ég sé á netinu að sá misskilningur er uppi að umræðan fari fram á þriðjudagskvöld og að deilt sé um tímasetningu. Svo er ekki. Sá valkostur var vissulega ræddur að hafa umræðuna á þriðjudagskvöld en niðurstaðan varð sú eftir viðræður þingflokksformanna og forseta í dag að hún skyldi fara fram á morgun enda eðlilegast að líta á vantraustið sem dagskrártillögu sem taka beri fyrir þegar í stað. Um endanlegar tillögur forseta Alþingis um fyrirkomulag umræðnanna náðist ágætt samkomulag. Fróðlegt verður að heyra hvernig stjórnarmeirihlutinn kemur til með að ...

22. Nóvember 2008

SMÁSÁLIRNAR OG SÉRRÉTTINDIN

Það er alltaf erfitt að reiðast lítilmagnanum. Miklu frekar að maður finni til samúðar í stað reiði þegar tilefni eru til slíks. Að sumu leyti finn ég einmitt til með Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki og þeim sem fylla raðir þessara flokka á Alþingi. Svo lítil voru þau í sér, að þau gátu ekki fyrir sitt litla líf hugsað sér að afnema eigin lífeyris-sér-réttindi - heldur hafa þau nú kynnt frumvarp sem felur í sér málamynda niðurstöðu. Vesalings fólkið. Þjóðfélagið komið á ...
Sunna Sara

22. Nóvember 2008

RÁÐAMENN SKAMMIST SÍN

Það á ekkert að breyta eftirlaunalögum þingmanna og ráðherra, það á að afnema þau í eitt skipti fyrir öll, annað er ótrúverðugt og tími til kominn að þetta fólk þekki sinn vitjunartíma og skammist sín...
Edda

21. Nóvember 2008

REYNA ÞAU AÐ KAUPA SÉR FRIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ FÓRNA SAMHERJUM?


...Engu að síður héldu þau út í heim í slagtogi með stærstu eigendum bankanna og stjórnendum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Sigurði Einarssyni til að segja fjárfestum á sameiginlegum fundum með þeim, m.a. í New York og Kaupmannahöfn, að allt væri í himnalagi. Fólk og fyrirtæki gætu óhrædd haldið áfram að fjárfesta ... Þegar haft er í huga að skuldasöfnunin varð mest eftir þessar áróðurs- og  auglýsingaferðir þeirra Geirs og Ingibjargar,  hlýtur að vakna spurning um pólitíska ábyrgð þeirra. Það væri vesalt af þeirra hálfu að reyna að bjarga eigin skinni með...

21. Nóvember 2008

HVER ER ÉG?

....
Alveg laus við þunga þanka
en þreytulegur yfirleitt,
syfjaður í seðlabanka,
ég sit og geri ekki neitt.

Vinir mínir virðast snjallir
og vilja flestir klekkja á mér.
Ef gleymist ég þá gleðjast allir.
Og gettu núna hver ég er.
....
Kristján Hreinsson

20. Nóvember 2008

TALAÐ TIL VINSTRI Í BRESKA VERKAMANNAFLOKKNUM


Ræða flutt á ráðstefnu Labour Representation Committe London 15. november.
Við stofnun Verkamannaflokksins breska var nafngiftin Labour Representation Committe. Nú skipuleggur vinstri armur flokksins sig undir þessu heiti og leggur þar með áherslu á ræturnar gagnstætt „Nýja Verkamannaflokki" þeirra Tonys Blair og Gordons Brown sem þykir kominn langt yfir til hægri í viðleitni sinni til að „nútímavæða" flokkinn. Opnunarræðu ráðstefnunnar flutti hin aldna kempa og foringi vinstri aflanna til langs  tíma,Tony Benn. Næstur kom ég en aðrir ræðumenn á boðaðri dagskrá voru ...

20. Nóvember 2008

VERÐTRYGGINGIN RÆDD HJÁ BSRB

hip
Undanfarnar vikur hefur BSRB efnt til opinna funda um ýmis þau mál sem heitast á okkur brenna nú um stundir. Fundirnir hafa verið vel sóttir og mun svo eflaust verða í dag þegar þeir Ingólfur H. Ingólfsson og Pétur H. Blöndal ræða verðtrygginguna, kosti hennar og galla og hvort æskilegt sé að afnema hana til skammst tíma eða til langframa. Ég vek athygli á að fundurinn er öllum opinn. Sjá nánar um stað og stund...

20. Nóvember 2008

TÍMI BREYTINGA ER NÚNA

...frétti af því að VG væru að leggja fram frumvarp sem fælist í 2% vaxtahámarki á verðtryggðum lánum. Ég tel að víðtækari aðgerða sé þörf og hvet þig til að beita þér fyrir aðgerðum í líkingu við þær sem ég hef verið iðinn við að kynna upp á síðkastið og eru svo hljóðandi: Í kjölfar hruns efnahagskerfisins er ljóst að eitt af stóru málunum í dag snýst um húsnæðislán heimilanna. Eins og kunnugt hafa stjórnvöld nú gripið til þeirrar tímabundu ráðstöfunar að bjóða upp á frystingu afborgana erlendra lána til 4-6 mánaða. Beðið hefur verið eftir útspili stjórnvalda í tengslum við verðtryggðu lánin. Þann 14.11.2008 kynnti ríkisstjórnin svo ...
Þórður B. Sigurðsson

20. Nóvember 2008

NÝJUM VEFMIÐLI ÓSKAÐ VELFARNAÐAR


Bjorg eva erlendsÞað er fagnaðarefni að nýr vefmiðill skuli kominn til sögunnar smugan.is  sem vill leggja sitt að mörkum til lýðræðislegrar umræðu með því að veita þeim opinn vettvang sem ekki hafa átt greiðan aðgang að fjölmiðlum hingað til. Smugan vill vera róttækur málsvari fólksins í landinu þegar góð ráð eru dýr." Ritsjórinn er ekki af verri endanum, Björg Eva Erlendsdóttir, ein vinsælasta fréttakona landsins og tvímælalaust í fremstu röð íslenskra fréttamanna. Björg Eva hefur langa reynslu að baki á RÚV, 24 stundum og fleiri fjölmiðlum og nýtur trausts fyrir vönduð...

19. Nóvember 2008

PÓLITÍK EÐA FAGMENNSKA?

Birtist í Morgunblaðinu 17. 11. 08
MBL  - LogoPólitík og fagmennsku hefur verið stillt upp sem andstæðum í umræðu um ný bankaráð hinna endurreistu ríkisbanka. Það er vafasöm nálgun. Eftir að búið er að kafkeyra fjármálakerfi landsins með jafn hrikalegum afleiðingum og raun ber vitni, heyrist talað um hættuna sem stafi af því að hleypa Alþingi að stjórn bankanna. »Bankaráðin flokkspólitísk á ný« segir í fyrirsögn Fréttablaðsins fyrir nokkrum dögum. Vandlætingartónninn er augljós...

19. Nóvember 2008

SIÐFRÆÐI KAUPHALLARINNAR

Birtist í Fréttablaðinu 17. 11. 08
Fréttabladid hausSkipuð hafa verið bankaráð í endurreistum ríkisbönkunum þremur, Glitni, Kaupþingi og Landsbanka. Skipan í bankaráð endurspeglar að nokkru valdahlutföllin í pólitíkinni, þrír frá stjórnarmeirihluta og tveir frá stjórnarandstöðu í hverju ráði. Þarna er að finna gömul andlit og ný. Jákvætt við listann yfir bankaráðsfólkið er að þarna er að finna fjölbreyttari flóru sjónarmiða en í stjórnum bankanna undanfarin einkavinavæðingarárin. Þá var þar bara eitt viðhorf ríkjandi: Fylgispekt við auðhyggju...

19. Nóvember 2008

VIÐ VISSUM EKKERT

Rík ástæða er til að efast um sannsögli þeirra félaga eða hvernig gat háskaleg staða bankanna farið fram hjá þeim? Ef þeir á hinn bóginn ætlast til að nokkur taki mark á þessari yfirlýstu vanþekkingu eiga þeir umsvifalaust að segja af sér vegna vanrækslu í starfi...
Þjóðólfur

18. Nóvember 2008

HARÐSVÍRAÐ LIÐ Í STJÓRNAR-RÁÐINU

Einstakir ráðherrar lögðust í skipulagða auglýsinga- og lygaherferð í útlöndum með útrásarliðinu og prófessorstitluðum leigupennum af hagfræðilegum toga þar sem markvisst var reynt að troða upp á fjölmiðla og ráðamenn í helstu viðskiptalöndum okkar ógeðfelldri glansmynd af íslensku efnahagslífi og gjaldþrota fjármálakerfi sem sagt var standa afar styrkum fótum...
Sigurborg

16. Nóvember 2008

„SAGNFRÆÐI" BIRGIS DÝRFJÖRÐ

Birtist í Morgunblaðinu 14.11.08
MBL  - LogoSá ágæti maður, Birgir Dýrfjörð, skrifar grein í Mogunblaðið 3. nóvember sl. undir fyrirsögninni Sjálfsafneitun Vinstri-grænna. Undir grein sinni titlar Birgir sig sem stjórnarmann í flokksstjórn Samfylkingarinnar. Í greininni gerir Birgir því skóna að hið umdeilda eftirlaunafrumvarp hafi í reynd verið flutt „fyrir hönd Vinstri-grænna", nokkuð sem ekki dugi að afneita. Þetta er ósatt.

15. Nóvember 2008

UM FRÉTTABRÉF SÍÐUNNAR


Nokkuð er um að fólk, sem hefur óskað eftir því að fá send reglulega fréttabréf  mín, fái þau ekki. Ég vil af þessu tilefni hvetja hlutaðeigandi að skrá sig að nýju. Það má gera í til þess gerðum reit hér til hliðar. Þess má geta að slíkt fréttabréf var sent út í gær. Hafi skráðir viðtakendur ekki fengið bréfið hvet ég þá til að skrá sig að nýju og að sjálfsögðu alla þá aðra sem áhuga hafa á að fá þessi bréf send sjálfkrafa.

14. Nóvember 2008

SÝNDARMENNSKA

...Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt "sparnaðartillögur" upp á 20% af útgjöldum ráðuneytisins. Þegar tölurnar eru skoðaðar kemur í ljós að þetta er að stærstum hluta (um 2/3 hlutar) niðurskurður á framlögum til þróunarhjálpar. Sá niðurskurður er til skammar. Raunverulegur sparnaður ...
Jón Torfason

14. Nóvember 2008

JÓN ÁSGEIR, LÁNSTRAUST HF OG BANAKALEYNDIN


...Kröfur Jóns Ásgeirs hljóta að vekja ýmsar áleitnar spurningar. Ef það er rangt að veita upplýsingar um lán til handa manni sem kaupir fjölmiðla í heilu landi, hvað mega þeir þá segja, sem lenda í vanskilum og bankarnir afhenda fyrirtækjum á borð við Lánstraust og öðrum aðilum, sem gera sér blankheit manna að lifibrauði, upplýsingar um?  Er í lagi að veita upplýsingar um fólk sem ... Hverra hagsmuna skyldi Björgvin, bankamálaráðherra ætla að gæta, smáskuldarans eða stórskuldarans? Eða kannski almennings? Ef hann ætlar að passa upp á almannahag þarf hann að sjá til þess að upplýst verði um öll hagsmunatengsl sem máli skipta í viðskiptalífi og stjórnmálum. Er þá ekki aðeins...

13. Nóvember 2008

SESTIR UNDIR STÝRI Á BLÚSSANDI FERÐ TIL FORTÍÐAR


Í gær mættu í Alþingi fulltrúar frá Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, RSE. Þeir komu færandi hendi með nýútkomna bók, Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry nokkurn Hazlit. Þessi bók er hvatningarrit fyrir frjálshyggju, sem þessi hægri sinnaða rannsóknarmiðstöð, sér ástæðu til að gefa út núna og færa alþingismönnum að gjöf ....En þeir voru fleiri sem kvöddu sér hljóðs í gær úr þessari átt. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþingsbanka skrifaði grein í Fréttablaðið. Hann er hjartanlega á sama máli og frjálshyggjufélagar hans hjá RSE. Fyrirsögnin á grein Finns er: Horft fram á veginn. Við nánari skoðum kemur í ljós að Finnur heldur sig við fortíðarlausnir, rétt eins og...

13. Nóvember 2008

SVAR TIL KRISTÍNAR MAGDALENU

Það er alveg laukrétt hjá Kristínu Magdalenu Ágústsdóttur að Bónusverslanirnar eru oftast með besta verðið og því kann það að virðast erfitt að refsa bónusdrengnum óreiðurekstur með því að sniðganga verslun hans. Við höfum hins vegar valdið til að mótmæla. Við getum farið á Völlinn, við getum sniðgengið Kaupþing og hreinsað út sparnaðinn og við getum hætt að versla í Bónus ef við viljum. Fjölskylda mín tók allt sitt út úr Kaupþingi, hún fer á Austurvöll á laugardögum og er hætt að versla í Bónus. Bróðir minn segir mér að ...Þetta er í ætt við aðferð Gandís ekki ósvipað því að refsa stjórnarflokkum í kosningum, eða eiga þá ósk heitasta að...
Ólína

13. Nóvember 2008

ÞAKKIR TIL FÆREYINGA


...Ég kom þökkum BSRB á framfæri  við sendiherra Færeyja á Íslandi í upphafi málstofunnar  og var kveðjunni fylgt eftir með dúndrandi lófataki fundarmanna. Ég leyfði mér að vísa í orðsendingu frá Gunnleivi Dalsgard, fyrrum  formanni Starfsmannafélags Færeyja til mín með tilvitnun í hvatningarkveðskap færeyskan.
Hlýhugur Íslendinga í garð Færeyja er mikill. Það mátti meðal annars finna á baráttufundinum á Austurvelli síðastliðinn laugardag. Þegar vikið var að rausnarskap Færeyinga var ákaft klappað. Hér á síðunni hafa einnig birst góðar kveðjur í bundnu og óbundnu máli, samanber þessa kveðju frá Kristjáni Hreinssyni, skáldi...

12. Nóvember 2008

HVER TÓK PENINGANA AF REIKNINGUNUM?

...Hvernig er hægt að matreiða svona upphæð í okkur skattborgarana án þess að sannreyna margar yfirlýsingar fyrrum bankastjóra bankanna um að allt féð hafi verið inn á þessum erlendu reikningum og Björgúlfur Thor sagði að hægt hefði verið að setja 5 falda ábyrgð á Icesafe með ríkisbréfum í Bretlandi og Þýskalandi ásamt öðrum löndum. Hver tók þetta fé þá af reikningunum því enginn hefur upplýst þjóðina um það og verði það ekki gert strax af skilanefndum fyrrum einkabankanna þá munum við ...
Þór Gunnlaugsson

12. Nóvember 2008

REYNSLA FÆREYINGA OG FINNA RÆDD HJÁ BSRB


...Hún sagði að sumt hefði þar verið vel gert en miklu fleiri væru vítin til að varast. Og eru Finnar lausir við kreppu? Það færi eftir því hvaða mælikvarða væri beitt.  Horfðum við til hagvaxtar eða atvinnuleysis, sem enn væri um 8% í Finnlandi? Þannig byggju margir Finnar - og þar með finnskt samfélag  -  enn við þrengingar, efnahagslegar og félagslegar. Sigurbjörg kvaðst líta svo á að það væri glæpur að slá á vinnandi hönd. Þetta þótti mér vera gullkorn eins og svo margt annað sem frá henni  kom á þessari málstofu. Gunvör Balle benti á margt athyglisvert úr reynslu Færeyinga í kreppunni, sem reið yfir Færeyjar um svipað leyti og kreppti að hjá Finnum. Gunnvör sagði að...

11. Nóvember 2008

HVERJIR ERU KOSTIRNIR? HVAR ER VERKALÝÐS-HREYFINGIN?

Sumir hafa verið að nota handbolta og knattspyrnuleik til að lýsa fjárhagsástandinu í dag, en ég næ því engan veginn. Ég vil benda þér og þeim á, sem lesa vefsíðu þína, að það er hvorki grín né leikaraskapur sem hefur átt sér stað og á sér stað enn. Ég vil frekar nota samlíkingu ástandsins við að manneskjukjáni hafi verið narraður út í síki og sé kominn upp í háls í hyldýpis-síkinu, og sé nú að hugsa sig um hvort hann eigi að fara lengra í von um að ná fótfestu og gullsjóðnum hinum megin, eða að...
Úlfur

10. Nóvember 2008

YFIRVEGUÐ LÖGREGLA


...Hitt má ekki gleymast að segja frá ræðuhöldunum og boðskapnum sem þar er að finna. Hann þyngist og er mjög á einn veg: Ríkisstjórnin víki og efnt verði til kosninga. Strax. Þetta er tónninn... Hvers vegna fáum við ekki að heyra hann í fjölmiðlum?... Skipuleggjandi laugardagsfundanna, Hörður Torfason, segir þá vera friðsamlega kröfu um breytingar...Haft er eftir Ingvari Þórissyni, kvikmyndagerðarmanni, í Morgunblaðinu í dag, að hann hafi haft góða yfirsýn yfir það sem gerðist og að lögreglan hafi brugðist „hárrétt við". Ekki látið „æsa sig upp í neitt." Þetta var líka mín tilfinning þegar ég hlýddi á viðtal sem tekið var við Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjón, sem ...

10. Nóvember 2008

STRÍÐS-YFIRLÝSING!

...Rökin sem FME og ráðamenn færa fyrir þessu er að það sé ómögulegt að manna yfirmannastöður í nýju bönkunum nema þetta sé gert, því lögum samkvæmt mega gjaldþrota einstaklingar ekki starfa fyrir banka!!! Fyrir mér er þetta stríðsyfirlýsing við okkur venjulegu borgarana í þessu landi sem erum flest með lán í þessum bönkum. Ef skuldir og sukk þessara óreiðumanna eru sópaðar útaf borðinu þá vil ég að það sama gangi yfir alla!!!!!! tugþúsundir töpuðu stórum hluta af sparnaði sínum, tugþúsundir venjulegra hluthafa í bönkunum töpuðu öllu sínu.... ég gæti haldið endalaust áfram... ég hef aldrei reiðst eins mikið á ævi minni og þegar ég heyrði þetta. þetta er hámark spilingarinnar og hvet ég ykkur til að hafa samband við sem flesta og beina reiði ykkar að þingmönnum okkar. Þetta endar með...
Jón Örn Kristinsson,
Löggiltur fasteignasali 

10. Nóvember 2008

Sigurbergur Árnason skrifar: ÍRAK NORÐURSINS

Tímasprengja kapítalismans er sprungin í Írak norðursins. Og drunurnar bergmála um almanakið, vikur, mánuði og ár. Heimatilbúin sjálfsmorðsklasasprengja, sprakk inní þjóðarsálina, særði stolt hennar og braut efnahagslega sjálfsvirðingu í mél í beinni útsendingu á flatskjá fjölmiðlafrelsisins. Krónan er komin í neyðarmóttöku fyrir þolendur efnahagsafbrota, niðurlægð og svívirt með brotna sjálfsmynd og bíður eftir dollaraplástri. Ríkisstjórn frjálshyggjunnar, vitorðsmenn spillingar og valdníðslu, með krónískt gróðapungsig, sat við veisluborð upptekin við að hygla sjálfri sér, bestu vinum sínum og skyldmennum þegar ...Nú er fátt til úrræðis en að strjúka rykið af fornaldarfrægðinni, sem var lokuð inni í sprengiheldum bókhlöðum og rifja upp hvað það var sem gerði okkur að þjóð fyrir meira en þúsund árum í stað þess að láta gerspillta og fávísa valdhafa kúga okkur í hraðferð til ...

9. Nóvember 2008

HVER ER ÞÍN SKOÐUN?

...Ég ætla nú bara að spyrja, hvaða skoðun hefur þú á verkalýðsformanninum Gunnari Páli Pálssyni og því sem hann gerði? Ég hefði viljað sjá þína skoðun hérna á síðunni....
Ágúst

6. Nóvember 2008

ÓLÍNA OG SNIÐGANGA BÓNUS OG BANKA

Ég vil senda spurningu til Ólínu. Hvernig í ósköpunum eigum við almenningur að geta hætt að versla hjá Bónus þegar aðrar verslanir eru með svo hátt matvöruverð að við getum keypt mjólk og brauð og smjör og búið??? Hver ætlar að gera okkur það kleift að hætta að versla við Bónus???? Það er búið að hækka stýrivextina í 18% og við höfum nóg með að borga af yfirdrætti og ekki hægt að eyða peningum heimilanna í bruðl.
Eins vil ég senda fyrirspurn til ...
Kristín Magdalena Ágústsdóttir

6. Nóvember 2008

AFNÁM LÍFEYRIS-SÉRRÉTTINDA

Þessi frétt mun sannarlega gleðja landsmenn. Ekki veitir af: "Þingflokkur Vinstri- grænna hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að afnema sérréttindi æðstu embættismanna sem kveðið er á um í hinum umdeildu eftirlaunalögum. [...] Við núverandi aðstæður í þjóðmálum væri einboðið að Alþingi tæki af skarið og kæmi sérréttindum eftirlaunalaganna út úr heiminum fyrir jól." Það er traustvekjandi að sjá...
Hjörtur Hjaratarson

6. Nóvember 2008

LANDRÁÐASTJÓRN

Nú getið þið ekki bara lýst yfir vantrausti á ríkistjórnina heldur sent Geir Haarde í allt að 16 ara fangelsi ásamt öðrum fjárglæframönnum sjá 91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum. Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem ....
Jóhann Þröstur Pálmason

6. Nóvember 2008

VEL NOTAÐIR PENINGAR ERU VEL GEYMDIR

Birtist í nýútkomnum SFR-tíðindum
Íslendingar standa á tímamótum. Öllum er ljós sá mikli vandi sem þjóðin stendur frammi fyrir. Flestir gera sér líka grein fyrir því að framundan er tími endurmats. Yngsta kynslóðin er forviða. Hún þekkir bara sveifluna upp á við - alla vega þegar þjóðfélagið er skoðað í heild sinni. Hún hefur að vísu haft af því spurn að þjóðfélagið sé orðið harðneskjulegra en áður var og vissulega erfitt að vera tekjulítill og veikur. Fæstir af þessari kynslóð þekkja þetta þó af eigin reynslu ...Hitt sem þá snýr að endurmatinu er hvaða lærdóma við getum dregið af reynslu undangenginna ára. Hér kemur lífeyrissparnaðurinn fyrst upp í hugann. Í hruninu innan fjármálageirans hafa lífeyrissjóðirnir orðið fyrir gríðarlegum búsifjum. Nú þurfa gæslumenn þeirra að ...

6. Nóvember 2008

LÁTUM BANKASTJÓRANA SVITNA

...þá held ég að fari um Gvend og meyna. Menn geta svo lagt þar inn aftur ef stjórnvöld bregðast við. Þannig geta menn í verki fellt einn bankann eftir annan ef þeir kjósa svo. Vilji menn hafa sparifé sitt á vöxtum geta menn lagt inn lítilræðið í trausta sparisjóði og gert þá að stórveldum. Annað sem almenningur getur gert. Menn geta til dæmis hætt að kaupa inn í Bónusverslununum í hálfan mánuð eða þrjár vikur og beint viðskiptum sínum annað ef þeir vilja að bónusdrengurinn fái að finna til tevatnsins. Það þarf ekkert að leita sökudólganna því allir vita hverjir þeir eru nema kannski ráðherrarnir og meðreiðarsveinar þeirra. Ég legg sem sé til að við byrjum á einum banka, tökum allar innstæðurnar út og ...
Ólína

5. Nóvember 2008

"NEI, NEI, ÞAÐ HEFUR EKKI VERIÐ RÆTT... EKKI, EKKI, JA,... NEI, NEI"


...Ég gerði grein fyrir því hér á síðunni í gær að þessar ásakanir eru rangar og ómaklegar. Það er því miður að verða daglegt brauð að ráðherrar í ríkisstjórninni fara með ósannindi. Ekki bara útúrsnúninga heldur helber ósannindi. Í gær upplýsti DV um nýjustu  yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar af þessu tagi. Hvað skyldi forsætisráðherranum  finnast um eftirfarandi fréttaflutning DV? Útúrsnúningar? Það er kominn tími á afsögn ríkisstjórnarinnar. Ekki út af þessu smáræði. Þetta er bara dropi í hafið. Haf ósanninda....

5. Nóvember 2008

FITUSNAUÐ FRAMTÍÐ SIGURÐAR KÁRA

..."Gleðin" var einmitt partí sem Sigurður og flokksbræður hans buðu til í gestgjafatíð Davíðs Oddssonar. Það væri því fróðlegt að fá nánari skýringar á því hverjir þessir "ýmsir" eru að mati Sigurðar. Er hann hér að vísa til óráðsíu "almennings" sem lét það eftir sér að fá sér flatskjá - og er að mati Björns Inga Hrafnssonar ein helsta ástæða þessa hvernig komið er? Er hann að vísa til utanlandsferða og dekurtúra ráðamanna, t.d. Þorgerðar Katrínar? Er hann að vísa til ofurlauna Seðlabankastjóra,  eftirlaunakjara þingmanna?
Hver  voru ...
Kristófer

5. Nóvember 2008

RANGFÆRSLUR FORSÆTISRÁÐHERRA


...Staðreyndin er sú að ráð okkar í þessum efnum hafa ekki verið „vel metin" hingað til og því miður ástæða til að hafa efasemdir um framhaldið í ljósi vinnubragða ríkisstjórnarinnar. Hvað tillögur okkar fram til þessa áhrærir nefni ég sem augljósasta dæmið frumvörp um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingasjóða, sem komið hefðu í veg fyrir Icesafe hneykslið. Ef þessi lagabreyting hefði verið samþykkt hefðu verið líkur á að þjóðinni hefðu sparast hundruð milljarðar! Icesafe reikningarnir gengu nefnilega út á að fá til ráðstöfunar sparifé til að fóðra óseðjandi fjárfestingarófreskju sem átti líf sitt undir því að fá stöðugt fjármagnsstreymi til að viðhalda sér..

5. Nóvember 2008

LAUNAFÓLKI HÓTAÐ OG SVIPT RÉTTINDUM

...Ég er ekki reið heldur hrygg að ríkisstjórnin skuli vera svo máttlaus að úrræðin berist svo seint þannig að fólkið sem tók ekki þátt í velsældinni verði nú öreigar. Eigendur fyrirtækja ganga nú um og reka fólk og gera samninga sem taka öll réttindi af fólki og uppsagnarfrestir eru ekki virtir, síðasta dæmið er stór keðja matvöruverslana þar er hræddu fólki stillt upp við vegg því sagt að verið sé að lækka starfshlutfall og að öðru leyti séu sömu kjör. Skrifaðu undir eða að þú ert rekinn, og í smáa letrinu kemur fram að það er verið að...
Íslendingur sem tók ekki þátt í þessu feigðarspili

5. Nóvember 2008

Einar Ólafsson skrifar: GÓÐÆRINU ER EKKI LOKIÐ

...Góðærið var þjófnaður. Á árum áður var notað orðið arðrán, sem þýðir að arðinum af vinnu almennings er rænt. Það er það sem gerðist. Hefur eitthvað tapast? Engin hús hafa brunnið í eldsvoðum eða hrunið í jarðskjálftum. Enginn hefur sett jarðskálftana í sumar í samhengi við það sem nú dynur yfir. Eldgos hafa ekki lagt lönd í eyði. Það hefur ekki orðið uppskerubrestur eða aflabrestur, engin snjóflóð hafa eyðilagt mannvirki og langt er liðið frá meiriháttar skipsskaða. Ekkert hefur eyðilagst. En margir hafa tapað þótt ekkert hafi brunnið, hrunið eða sokkið. Það er jafnrangt að líkja kreppunni við...

3. Nóvember 2008

HVAÐ ER ÁRÁS Á FULLVELDIÐ?

...Hann spurði mig einsog í framhjáhlaupi hvort rétt væri að þeir sem stjórna ættu rannsókn á hruni bankakerfisins ættu börn sem væru nátengd Kaupþingi og Glitni og hvort dómsmálaráðherra landsins ætti tengdason sem væri í innsta hring annars aðaleiganda Landsbankans.... Ég gladdist yfir því að Pétur Blöndal, alþingismaður, skyldi líkja framferði bankanna við árás á fullveldi Íslands. ...Slík ákvæði eru segir mér lögmaður að finna í lögunum númer 19 frá 1940. Ekki er ég lögfræðingur en hef bærilegan málskilning. Ég fæ ekki betur séð en að í 10. kafla laga þessara séu ákvæði, sem hugsanlega gætu náð yfir framferði einhverra bankamanna, og er ég þá að miða við að aðgerir þeirra virðast hafa sett íslenska samfélagið á hausinn... Um það fjallar tíundi kafli almennra hegningarlaga og viðurlögin eru ströng.
Ólína

3. Nóvember 2008

ÚR MENNINGARFJÁRSJÓÐI

Á þrengingartímum er hollt að leita í menningarfjársjóði þjóðarinnar. Þar er að finna margar perlur.
Í inngangi að Andvökum Stephans G. Stephanssonar frá árinu 1939, skrifar fræðimaðurinn og ritsnillingurinn Sigurður Nordal formála, sem síðar var gefinn út í sjálfstæðu riti. Þar víkur hann óbeint að hildarleiknum sem þá var fyrirsjáanlegur, heimsstyrjöldinni síðari. Sigurður ræðir hugsjónir Klettafjallaskáldsins og minnir á þau gildi i mannlífinu sem dýrmætust eru. Eftirfarandi eru niðurlagsorðin í formálanum frá 1939 en þau er ekki að finna í útgáfu Helgafells frá 1959. Örfáar línur en mikil viska. Hvert orð á erindi við samtímann...

2. Nóvember 2008

UM SÖGUVITUND Á ASÍ KONTÓR

...Það er leitt að nýkjörinn forseti ASÍ skuli ekki vera betur að sér í sögu landsins en það að jafna ástandinu nú við móðuharðindin, þegar nokkur þúsund manna dóu úr hungri og hungursóttum. Það er eins og hann þekki ekki til harðindáranna í upphafi 19. aldar, óáranar milli 1850 og 1860, harðindakaflans sem hófst 1882 og ýtti mjög undir vesturfarirnar. Hann virðist ekki hafa heyrt um frostaveturinn 1918 og þrengingarnar á heimsstyrkjaldarárunum fyrri, hvað þá að hann viti um kreppuárin upp úr 1930 þegar verð á afurðum féll um helming eða erfiðleikunum eftir seinna stríðið og í lok sjöunda áratugarins. Hafa menn enga söguvitund á ASÍ-kontórnum? Sem betur fer er ...
Jón Torfason

2. Nóvember 2008

TALAÐ FYRIR RÉTTLÁTRI KJARASTEFNU


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
skrifar að venju frábæran laugardagspistil í Morgunblaðið í gær. Hún vill nýja launastefnu í þjóðfélaginu: „Nú er ráð að íhuga gamla tíma og nýja. Hvað segja rætur okkar um sanngirni...Þær segja okkur m.a. þetta: Það var menningarleg venja að skipstjórahlutur væri tvöfaldur hásetahlutur. Réttlætiskrafa þjóðarsálarinnar og áratuga barátta kynslóðanna bergmálaðist m.a. í frægu þingmáli Stefáns Jónssonar þar sem hann lagði til að engin laun í landinu væru hærri en tvöföld verkamannalaun.

2. Nóvember 2008

EF VG FER MEÐ SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKI ER ÉG HÆTTUR!

...Myndir þú og þínir þingflokksfélagar vilja mynda alvöru vinstri stjórn með Samfylkingu eða yrði ESB í fyrirstöðu og jafnvel þið og Sjálfstæðisflokkur mynda bandalag þar sem þið eruð sammála um það að evran eigi ekki að koma nálægt landinu? Ég segi það sem vinstri maður, sósíalisti og félagshyggjumaður að ég myndi gefast endanlega upp á íslenskum stjórnmálum ef VG og Sjálfstæðisflokkur myndu fara í stjórn saman.
Ágúst Valves Jóhannesson

2. Nóvember 2008

ÞARF AÐ STINGA ALLRI ÞJÓÐINNI INN?

Helsta ástæða þess að Sovétríkin hrundu var sú að stjórnvöldum tókst illa að ná í alla þá geðveiku borgara sem gagnrýndu þau. Þau hefðu átt að ganga fram af miklu meiri hörku, jafnvel þó það hefði þýtt það að stinga inn allri þjóðinni. Nú er til skítalýður sem veður uppi á Íslandi og gagnrýnir réttsýnan leiðtoga vorn á vikulegum fundum. Er ekki kominn tími til að Flokkurinn stofni lögreglulið til að hafa hemil á þessarri óværu og koma henni fyrir þar sem hún á heima. Þessi aðsúgur verður nú til þess að leiðtogi ...
Sigmundur Guðmundsson,
stærðfræðingur

2. Nóvember 2008

RÍKISSTJÓRN OG FME HAFA GENGIÐ Á BAK ORÐA SINNA

Eitthvað rámar mig í að bæði Geir forsætisráðherra ásamt Björgvini viðskiptaráðherra hafi í sjónvarpsmiðlum lofað því að inneign landsmanna í séreignarsjóðum hyrfu ekki fyrir augum okkar. Það passar ekki alveg við að Almenni lífeyrissjóðurinn var að tilkynna mér lækkun á minni eign væri 25% sem er 2ja til 3ja ára laun hjá mér skv. minni áætlun um notkun séreignar á eftirlaunum. Staðreyndin er sú að ríkisstjórnin hefur markvist unnið gegn hagsmunum lífeyrissjóða með því að  ...
Kveðja.
Sturla

1. Nóvember 2008

RÍKISSTJÓRNIN ER KLOFIN, SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKURUNN ER KLOFINN

...Og þó tekur steininn úr þegar bankastjóri Seðlabankans rís upp til varnar og birtir opinberlega leyniplagg Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem kemur það sem allir vita að ÖLL forysta Sjálfstæðisflokksins ber auðvitað - eins og Samfylkingin - ábyrgð á samskiptunum við IMF. Greinilegt er að varaformaður Sjálfstæðisflokksins er að berjast til valda gegn formanninum og sérstaklega er henni greinilega uppsigað við Árna Mathiesen fjármálaráðherra. ...Og hér áðan var spurt: hvernig lítur það út erlendis þegar helmingur ríkisstjórnarinnar talar gegn ríkisstjórninni í Evrópumálunum? En hvernig lítur það út gagnvart umheiminum meðal annars Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þegar leiðtogar stjórnarflokksins ragmana fram upplýsingar úr leyniplöggum? Er svoleiðis ríkisstjórn treystandi...
Sigurður Bjarnason

1. Nóvember 2008

DÆMALAUS HANNES H. GISSURARSON Í KASTLJÓSI!

...Að vísu var frekjan og yfirgangur Hannesar slíkur að Karl og spyrjandi þáttarins komust varla að. Hrokinn var yfirgnæfandi. Hannes var og hefur verið einn aðal fjárhagspostuli Sjálfstæðisflokksins alla valdatíð Davíðs, og fram á þennan dag...Hin hliðin sem er öllu alvarlegri, er heimatilbúin. Hana má rekja beinlínis til inngöngunnar í EES og síðan einkavæðingarinnar ásamt stjórnlausri markaðshyggjunni sem Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson með aðstoðarmönnum sínum og "spekingum" eins og ...
Úlfur

1. Nóvember 2008

HVAÐ VARÐ UM PENINGANA Á INNLÁNS-REIKNINGUM ICESAVE?

Staða VG í dag er eins og ég var búinn að spá en fylgið mun eiga eftir að aukast. Ég hef fylgst með umræðum á þingi og þá slæmu stöðu sem ríkisstjórnin er kominn í varðandi kjör Alþjóðabankans og þagnargildi uns stjórn bankans hafi rætt málin. Vilji Norðmanna um að taka upp þeirra gjaldmiðil með stuðningi stórþings þeirra er afar athyglivert eins og staðan er í dag. Þó eru öllu verra stóryrtar fréttir um að okkar hlutur í Icesave verði 440 milljarðar en heildartala nálagt 900 milljörðum til innlánsþega þessara reikninga. Halldór bankastjóri Landsbankans....
Þór Gunnlaugsson

1. Nóvember 2008

MÆLI MEÐ SALNUM Í DAG - EFTIR ÚTIFUNDINN Á AUSTURVELLI


Á blaðsíðu 44 í Morgunblaðinu - menningarsíðunni - segir frá sérstakri menningarsamkomu í Salnum í Kópavogi í dag. Yfirskriftin er Suðrænir tónar, blær að austan og gamli Bach. Þarna leggja þau saman frændsystkin, Ögmundur Þór Jóhannesson, gítarleikari og frændkonur hans tvær, gler- og textíl listakonurnar Sigrún og Ólöf Einarsdætur.  ...Ég hef áður sótt tónleika með gítarsnillingnum unga og hrifist af leikni hans. Mæti að sjálfsögðu í dag. Fer í Kópavoginn að loknum útifundi. Mæli með eftirfarandi dagskrá...

30. Október 2008

ÁGÆTU FÆREYSKU FRÆNDUR

Ágætu færeysku frændur,
nú finn ég að sálin mín hlær.
Fyrst var ég reisninni rændur
svo rættist einn draumur í gær,
ég frétti af láni frá frændunum bestu
sem færa nú þjóð minni hlýjuna mestu,
þá ást sem er okkur svo kær.
.......

Kristján Hreinsson, skáld

29. Október 2008

BJÖRGÚLFUR THOR LOFAÐI BRETUM 200 MILLJÖRÐUM ÍSLENSKUM

Ég horfði á viðtal við Björgúld Thor Björgúlfsson í Kompási. Hef aldrei séð annan eins hrylling. Botnlaus ósvífni frá upphafi til enda. Get ég komið með peninga? Nei,  svaraði hann sjálfum sér. Er sagður einn af ríkustu mönnum heims. Sölsaði undir sig eignir í miðborg Reykjavíkur í blóra við almenning og hefur hreykt sér um allan heim á kostnað Íslendinga og þykist nú þess umkominn að...hann ætlaðist til þess að Seðlabankinn og ríkisstjórn Íslands hlýddu honum. Ég hef ekki séð bent á þetta fyrr: Að hann lofaði Bretum  500 milljónum evra  frá Íslendingum. Hann semsé lofaði þessu án umboðs frá nokkrum manni. Það var loforð Björgúlfs Thors sem gerði Brown brjálaðan þannig að hann beitti hryðuverkalögum á Íslendinga. Og hann segir: Það höfðu verið byggðar upp væntingar hjá Bretum og ég skil vel að þeir yrðu æfir...
Sigurður Bjarnason

29. Október 2008

HAFA ÞARF SNÖR HANDTÖK

Afar merkilegt viðtal við þig og Pétur Blöndal í Mannamáli á Stöð 2 um síðustu helgi og var ekki að heyra annað en að Pétur ætli ekki sem formaður aðalnefndar Alþingis að skrifa upp á ánauð á þjóðina vegna erlendra reikninga og verður því þungur róður að ná þessu í gegn en samkvæmt lögum má aðeins greiða úr þessum tryggingasjóði með 19 milljarða höfuðstól og ekkert annað. Það er því með öllu óvíst hvort að aðrir greiðasamningar til að halda andlitinu út á við haldi vatni en Ríkið hefur hingað til ekki greitt neinar skaðabætur hvorki vegna ábyrgða né slysa nema með dómum Hæstaréttar. Fjármálaráðherra þarf að mínu mati að hafa snör handtök í sínu ráðuneyti til ...
Þór Gunnlaugsson

28. Október 2008

ALLT UPP Á BORÐIÐ

...Góð og nauðsynleg heimasíða. Það er erfitt að tjá sig um öldurótið, sem núna gengur yfir en get bara sagt það að allir eiga að koma með hugmyndir og það á ekkert að liggja í kyrrþey. Öll mál, þægileg og óþægileg eiga að koma upp á borðið....
Kveðja,
Friðrik

28. Október 2008

FORSÆTIS-RÁÐHERRA OG FJÁRMÁLA-RÁÐHERRA BERA ÁBYRGÐ

...Samkvæmt greiningu Financical Times og öðrum haldbærum upplýsingum má benda fingri á sökudólgana, þá sem hafa komið þjóðarskútunni í strand. Við nánari skoðun er ekki hægt að kenna bönkunum um. Ekki heldur eftirlitsaðilum því öll viðspyrna þeirra var stöðvuð í fæðingu svo skútan ruggaði ekki um of. Ábyrgðin liggur ekki heldur hjá kónginum í Seðlabanka, ekki beint. Að vísu hefur sá aulabárður kostað Íslendinga æruna og kannski hundruði milljarða með röngum ákvörðunum og heimskulegu blaðri. Kóngurinn ber ekki raunverulega ábyrgð heldur þeir sem ...
Einar

28. Október 2008

Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifar: OPIÐ BRÉF TIL GUNNARS GUNNARS-SONAR, FYRRVERANDI FRAMKVÆMDA-STJÓRA SJÚKRALIÐA-FÉLAGS ÍSLANDS

Í september blaði Sjúkraliðans birtist bréf frá þér til Ögmundar Jónassonar, bréf sem Ögmundur hafði reyndar þegar birt á heimasíðu sinni.  Þar sem bréfið fjallar að miklu leyti um samkomulag Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 9. júlí 2008, ákvað ég að skrifa þér lítið „letters bréf".  Ég hefði reyndar kosið að þú hefðir haft samband við mig áður en þú skrifaðir Ögmundi bréfið, því þá hefði ég getað skýrt fyrir þér þá hugsun sem liggur að baki samkomulaginu og leiðrétt misskilning. Að mínu mati er mikilvægt að muna að kjarasamningar eru hluti af starfskjörum launamanna.  Hið sama gildir um starfsumhverfi.  Ég tel afar mikilvægt að samhengi sé á milli þessara tveggja þátta.  Jákvæðasta starfsumhverfi fyrir hjúkrunarfræðinga og aðrar vaktavinnu- og kvennastéttir er m.a. að...

28. Október 2008

ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN FYRIRSKIPAR VAXTAHÆKKUN - RÍKISSTJÓRNIN HLÝÐIR - GLÆPSAMLEGT GLAPRÆÐI


Hækkun stýrivaxta upp í áður óþekktar hæðir - 18% - mun strax smita inn í allt lánakerfið - hafa áhrif á yfirdráttarlán og dráttarvexti. Með öðrum orðum vaxtahækkunin bitnar harðast á þeim sem eru þegar komin í vanskil. Seðlabanki og ríkisstjórn staðhæfa og að þetta sé gert samkvæmt skipun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta eru því fyrstu kynni Íslendinga af innkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í okkar líf í þessari lotu. Við erum m.ö. o. farin að finna fyrir frostköldum andardrætti hans. Ríkisstjórnin hlýðir eins og við var að búast -enda búin að samþykkja skilyrðin. Það gerði hún á bak við tjöldin, í innilokuðum og súrefnissnauðum lókölum, fjarri ...

27. Október 2008

OPIÐ FUNDARBOÐ TIL RÁÐAMANNA ÞJÓÐARINNAR


Í kvöld klukkan 20 gangast tveir einstaklingar, þeir Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og Davíð Á Stefánsson, bókmenntafræðingur, fyrir opnum fundi í Iðnó í Reykjavík. Á fundinum gefst fólki kostur á að viðra skoðanir sínar og leita svara. Ávörp verða flutt  en ræðumenn eru Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður, Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur.  Eftirfarandi er sjáft fundarboðið...

27. Október 2008

ÞAÐ ER ÓSATT AÐ VIÐ BERUM ÖLL SÖK


...Hvers vegna skyldi ég hnýta aðstoðarmönnum ráðherra við þessa upptalningu? Ætli þau hugrenningartengsl megi ekki rekja til leiðar Fréttablaðsins í dag þar sem höfundur, Björn Ingi Hrafnsson, gerir þjóðina alla að sökudólgum. Björn Ingi var einmitt aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, eins ákafasta einkavæðingarráðherra Framsóknarflokksins. Björn Ingi Hrafnsson trúir okkur fyrir því að hann hafi notið veisluhalda einkavæðingarinnar í botn. Það eigi reyndar við um okkur öll, „sem fannst gaman í veislunni og gott að þurfa ekki lengur að eiga fyrir hlutunum." Björn Ingi segir okkur að við höfum verið „óheppin" en þegar allt kemur til alls berum við „hér öll sök...

26. Október 2008

ALÞINGIS-KOSNINGAR SEM FYRST

Hvernig er hægt að láta það gerast að það verði boðaðar þingkosnigar sem fyrst? Finnst þér VG tilbúið í þann slag að það verði boðaðar þingkosnigar fljótlega? ...
Ásdís

26. Október 2008

ORÐIÐ DIMMT

Nú er orðið nokkuð dimmt
nú er snjór að falla.
Guð ég vona að getum skrimt
og gildi fyrir alla.
....
Steingrímur

26. Október 2008

GEIR OG INGIBJÖRG BRUGÐUST


... Þess í stað hafa oddvitar stjórnarflokkanna stigið upp í næstu þotu til að taka þátt í því að sannfæra sparifjáreigendur um allan heim um að allt væri í lukkunnar velstandi í íslenskum bönkum - óhætt að treysta þeim með heilt þjóðfélag að bakhjarli. Í mars sl. sagði Ingibjörg Sólrún, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, að áhyggjur af íslenskum bönkum væru fullkomlega ástæðulausar...Reyndar gaf Geir  í skyn að bankarnir stæðu geysilega vel vegna þess að þeir störfuðu eftir leynilegri formúlu sem ekki yrði gefin upp!  Eða hvernig á að skilja viðtalið sem bandaríska sjónvarpsstöðin CNN átti við hann og Morgunblaðið  sagði frá 15. mars...

26. Október 2008

INGIBJÖRG OG GEIR BRUGÐUST


...Þau Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, voru bullandi meðvirk. Þau héldu út í heim með útrásarvíkingunum til að tala bankana upp og segja almenningi utanlands þau ósannindi að það væri alveg óhætt að treysta áfram íslenskum bönkum fyrir sparifé því hjá þeim væri allt í himnalagi! Á fundi í Kaupmannahöfn 11. mars sl. þar sem Ingibjörg Sólrún hélt erindi á pepp-fundi með Sigurði Einarssyni, bankastjóra KB banka og fleirum sagði hún...Tveimur dögum síðar var Geir Haarde  í New York ásamt Jónir Ásgeiri Jóhannessyni og fleiri íslenskum fjárfestingarbarónum að sannfæra heiminn um að engar brotalamir væri að finna í íslensku bankakerfi...

26. Október 2008

JAFNRÉTTISLÖG BROTIN Á DEGI HVERJUM

Hún Harpa ritaði á heimasíðuna þína um karla og konur í valdastöðum og ég er að vissu marki sammála henni. Mér finnst það fullkomlega óintressant hvort einhver er með 1700 þúsund á mánuði eða 1900 þúsund, og í raun móðgun við fólk að jafnréttisbaráttan snúist um hvort karl eða kona fái meiri ofurlaun. Hins vegar held ég að það sé aldrei mikilvægara en núna að láta jafnréttiskröfuna hljóma. Við sjáum það alls staðar í samfélaginu að konum er sópað til hliðar í umræðunni - nú er komið að alvöru málsins og konur eiga ekkert erindi við háborðið. Rödd kvenna heyrait varla í umræðuþáttum lengur og ríkisstjórnin brýtur jafnréttislög samviskusamlega á hverjum einasta degi við ...
Drífa

25. Október 2008

AF HVORU KYNI?

...Er það styrkur fyrir jafnréttisbaráttuna að Valgerður Sverrisdóttir eða Margrét Thatcher hafi gegnt valdastöðum?Hverju breytir það að Ingibjörg Sólrún er kona? Ég er jafn ósátt við skoðanir hennar og væri hún karl. Í pólitísku tilliti á ég ekkert sameiginlegt með Ástu Möller, Ingibjörgu Sólrúnu, eða Valgerði Sverrisdóttur frekar en þú með Geir Haarde, Davíð Oddsyni eða Bjarna Benediktssyni. Ég er ekki þeirrar skoðunar að þótt við konurnar höfum ekki haft sömu tækifæri og þið karlarnir til þess að setja mark okkar á valdakerfi og viðskiptalíf landsins á undanförnum árum séum við þar með ...
Harpa

25. Október 2008

ALAN GREENSPAN - MILTON FRIEDMAN -GEORG SOROS

...Í staðinn fyrir að láta staðar numið, læra af reynslunni og sjá að sér, og fara ekki lengra út í síki einkavæðingarinnar og græðginnar, þá skal halda áfram upp fyrir haus út í forina. Það er ekki nóg að gera islensku þjóðina gjaldþrota og gera okkur og niðja þræla erlendra ríkja, það skal halda áfram í óþjóðlegri glæpamennskunni. Í staðin fyrir að frysta eignir meintra fjárglæframannanna og banna þeim burtfararleyfi, ef ekki að setja þá í stofufangelsi; að heimta sem frumskilyrði að allar eignir og sjóðir þeirra hérlendis og erlendis verði teknir til að greiða uppí hræðilegar skuldir vegna þeirra athæfa bæði innanlands og erlendis, þá eru menn að ræða hvernig við getum fengið stórlán til að greiða það sem við sem þjóð skuldum ekki, og að ...
Úlfur  

25. Október 2008

KRÖFTUGUR EINAR MÁR


Krafa útifundar á Austurvelli í dag gekk út á að rjúfa þögn ráðamanna og aflétta þeirri leynd sem hvílir yfir samningaviðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Fundurinn var mjög öflugur. Talað var tæpitungulaust. Greinilega um of fyrir fréttastofur ljósvakamiðlanna, RÚV ohf og Stöð 2. Sjónvarpsstöðvarnar sýndu ekkert frá fundinum að því er ég best sá! Þær sýndu hins vegar frá fundi sem síðar um daginn var haldinn við Ráðherrabústaðinn...Við Ráðherrabústaðinn var seðlabankastjóri hrópaður niður. Á Austurvelli fékk allur mannskapurinn go´moren. Líka ríkisstjórnin. Sannast sagna skil ég ekki hvað henni hefur verið hlíft í umræðunni...Svo var það Einar Már Guðmundsson, rithöfundur sem hreinlega fór á kostum. Hann flutti sannkallaða eldmessu. Skemmtilega, beitta, pólitíska, sanna.  Einar Már sýndi að ritsnillingar eiga ekki bara erindi inn á blaðsíður bóka sinna heldur inn í kviku samtímans á ...

24. Október 2008

Guðmundur R. Jóhannson skrifar: SYNDABYRÐI

...Þegar þjónustufulltrúinn í bankanum sagði:  Blessuð, þú ert með sparnaðinn þinn á aðeins 11% vöxtum.  Hérna er sjóður með 23% vöxtum, alveg gulltryggður.  Fæðru aurana yfir í hann.  Auðvitað trúði fólk þessu,...Getum við treyst þeim stjórnmálamönnum sem hafa kynt undir bálinu eða a.m.k. horft á aðgerðarlausir þrátt fyrir viðvaranir, sem þessir velvitandi hlógu að?  Það er talað um að gera úttekt á málinu, gefa út hvít bók.  Það hlýtur að verða kolsvört bók.  Við getum ekki treyst mörgum Íslendignum til þess.  Í verkið verða að fara færustu erlendir sérfræðingar sem völ er á, til þess að vinna verkið þarf algerlega hlutlausa aðila.  Og  þegar endurreisnin hefst verðum við að ganga hægt um.  Því miður hefur okkar þjóð oft haft til siðs að vaða fram án þess að gá niður fyrir fætur sér.  Þetta reddast.  En það reddast ekki í höndum misviturrra landa okkar, bankamanna, eftirlitsmanna og ekki síst stjórnmálamanna.  Vonandi verða þessir ....

24. Október 2008

LEIÐSÖGUMENN VÍSA VEGINN...


Að mörgu leyti er ég sammála því sem formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, þau Geir H. og Þorgerður K. sögðu fyrir síðustu kosningar. Nefnilega að þegar öllu væri á botninn hvolft væri traust efnahagsstjórn brýnt velferðamál. Mér finnst þetta miklu skynsamlegra sjónarmið en við heyrðum frá forsætisráðherranum í vor leið þegar hann lét að því liggja að besta efnahgsráðið væri að gera ekki neitt! Hann fylgdi þeirri hugsun eftir í verki og aðhafðist ekki. Það heitir á fræðimáli að hafa samræmi á milli teoríu og praxis.
En varðandi ...

24. Október 2008

INNLEND ATVINNUSKÖPUN - LOFTRÝMISGÆSLA

...Í tilefni af pistli þínum um öryggisráðið, Össur og drápstólin....Varðandi loftrýmisgæsluna (er þetta ekki nýyrði?) þá vil ég leggja til að við spörum gjaldeyri með því að fela Veðurstofu Íslands að sjá um loftrýmisgæsluna. Þar á bæ þurfa menn hvort eð er að líta til himins og skrá skýjafar daglega - og hafa net ábyggilegra umboðsmanna til þess um allt land. Ólíkt núverandi fyrirkomulagi yrði hér um stöðuga gæslu að ræða, a.m.k tvisvar á dag, árið um kring.  Sjálfsagt væri að greiða fyrir þessa þjónustu ....Ingibjörg Sólrún, þú myndir kannski upplýsa okkur ...
Jón Þórisson

23. Október 2008

BLÁMANN

Eitt sinn var hér frábær fýr,
svo fagurblár var hann,
hann sagði okkur ævintýr
um annan bláan mann.

Og Blámann hét sá blái sveinn
því blár var litur hans,
hann vildi hafa völdin einn
í veröld Skaparans.

Hann átti fagurbláan bíl
og blátt var húsið hátt,
á, þar var allt í einum stíl,
einfaldlega - blátt.
....
Kristján Hreinsson, skáld

23. Október 2008

ÁVARP Á ÁRSFUNDI ASÍ


Ræða flutt á Ársfundi Allþýðusambands Íslands 23.10.08.
...Þá er það hin megin krafan og hún er þessi: Þeir sem komu okkur út í þetta fen eiga að axla ábyrgðina, þeir eiga að borga.
Þá fyrst opni almenningur pyngjur sínar að,
allar hallirnar,
allar snekkjurnar,
öll fótboltaliðin,
og allar þoturnar hafa verið seldar og allir felureikningarnir á Cayman eyjum, Kýpur  og á Ermasundi  hafa verið tæmdir
og að S-hópar einkavinavæðingarinnar  hafa skilað ránsfeng sínum tilbaka.
Þetta hlýtur að verða krafa verkalýðshreyfingar og forsenda þess að gengið verði til einhvers sem kalla megi þjóðarsátt.
Og er ég þá ekki byrjaður að ræða hina pólitíska ábyrgð. Einnig hún kallar á uppgjör. Uppgjör á milli stjórnmálaflokka og innan stjórnmálaflokka....

23. Október 2008

UMBOÐSLAUS RÍKISSTJÓRN

Birtist í DV 22.10.08.
DV...Vandinn er sá að lausn á bráðavandanum er háður lausn á langtímavandanum. Samhengið er þetta: Við þurfum að taka erlend lán til að hjól viðskipta, þar með á gjaldeyrismarkaði geti farið að snúast að nýju. Hér kemur Aljóðagjaldeyrissjóðurinn inn í myndina. Hans hlutverk er meðal annars að greiða úr gjaldeyriskrísum í heiminum en fyrst og síðast lítur hann á sig sem eins konar heimslögreglu kapítalismans.  Undanfarna daga hefur hann notað tímann vel. Allir þeir sem gefið hafa til kynna að þeir vildu ...

23. Október 2008

Baldur Andrésson skrifar: RÍKIS-STJÓRNIN VEÐSETUR BÖRNIN OG FRAMTÍÐINA

Á yfirstandandi bulltímum um
,,þjóðarsamstöðu" gengur nú ríkisstjórnin með betlistaf að lánasnapi þannig að skuldsetja megi hvert íslenskt heimili um tugi milljóna. Aðeins eitt stórlánið sem fer strax til skuldagreiðslu, þetta frá Alþjóðabankanum og Norðurlöndunum leggur sig á 16 milljónir á hvert íslenskt heimili segir Viðskiptablaðið. Nú á ríkið að skrá sig að auki fyrir hundraða milljarða skuld við breska ríkið vegna Landsbanka-glæpanna. Áfram verður  strokkað  því mörg önnur Evrópuríki undirbúa álíka kröfugerð. Glitnis... Allt þetta ferli er sönnun á að ráðmenn Íslands telja sig meðseka og ábyrga fyrir þeim efnahags-landráðum,sem framin hafa verið undanfarin ár. Allt taut Geirs Haarde um frábæra stöðu ríkissjóðs ber vott um ófyrirgefnalegar blekkingar. Málið snýst ekki einungis um kunna ágalla kapítalisma og nýfrjálshyggju. Þetta er afbrotamál sem snýst um stórþjófnaði, peningaþvætti, skjalafals, bókhaldssvik, ótrúlega fjárglæfra...

23. Október 2008

SKULDAKLAFI OG STÓRRIDDARA-KROSSAR

Um hvað eru íslensk stórnvöld, Geir fyrrum fjármálaráðherra og Ingibjörg Sólrún að semja við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn? Jú skyldi þó aldrei vera um það hvernig við getum best gengið að kröfum aðildarríkja sjóðsins eins og Breta og Hollendinga um að greiða þeim skaðabætur, sem nema tólffaldri þjóðarframleiðslu. Það tekur ca. 100 ár að greiða þá skuld, sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn stofnuðu til, dyggilega studdir af Samfylkingunni. Íslenska þjóðin á að greiða...
Sigurbergur Árnason

22. Október 2008

VERKALÝÐS-FORYSTAN OG VERÐTRYGGINGIN

...Þar sem þú átt sæti í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins þá langar mig til að forvitnast um afstöðu þína til verðtryggðra lána nú þegar mikil hætta er á mikilli verðbólgu næstu misserin. Þú þekkir nú þessi mál og afstöðu ungs fólks til þeirra síðan þú varst í forystu Sigtúnshópsins. Það er að mínu mati alveg óviðunandi að verkalýðsforystan sýni því engan skilning hversu illa verðtryggingin hefur og mun leika ungt og skuldum vafið fólk... 
Guðmundur Hörður Guðmundsson

22. Október 2008

BSRB OG KÆRKOMIN BLÓM


...Þetta var í október árið 1988. Þá hafði ég verið félagi í BSRB í tíu ár eða allar götur frá því ég kom til starfa hjá Ríkisútvarpinu vorið 1978. Inn í stjórn BSRB kom ég á þingi bandalagsins í byrjun níunda áratugarins og einnig átti ég aðkomu að starfsemi BSRB sem formaður Starfsmannafélags Sjónvarps mestallan tíma sem ég var þar starfandi.  Þegar allt reiknast til hafa leiðir mínar og BSRB legið saman í þrjá áratugi. BSRB er því orðinn snar þáttur í minni tilveru. Þótti mér vænt um blómvönd sem félagar mínir og vinir færðu mér í tilefni af þessum tímamótum og góðum kveðjum sem fylgdu..

21. Október 2008

VERULEIKAFIRRINGIN OG AFVÖTNUNIN


Forsíðufréttin í Fréttablaðinu á sunnudag var í sjálfu sér ágæt. Þar segir að tekjur ríkisins af starfsemi stærstu bankanna í ár verði að öllum líkindum innan við 12 milljarðar en hafi numið nærri 37 milljörðum í fyrra. Ríkið verði þannig af 25 milljörðum...En örlar hér á veruleikafirringu?....Illt er að þurfa að sitja undir mási og dæsi leiðsögumanna okkar út í skuldafenið með aðfinnslur um hvað aðrir gerðu rangt. Þau segja það til dæmis hafa verið hneykslanlegt að...

21. Október 2008

OKKAR BESTU MENN ERU Á VAKTINNI

...Á heimasíðu þingsins má til dæmis sjá að hinir mikilhæfu og framsýnu þingmenn Sigurður Kári Kristjánsson, Ágúst Ólafur Ágústsson og  Birgir Ármannsson eru flutningsmenn frumvarps um afnám einkaleyfis ríkisins á sölu áfengis. Það er greinilegt að menn eru algjörlega með stöðuna á hreinu - og gera ráð fyrir að frumvarpið, sem lagt var fram á Alþingi á fimmtudaginn í síðustu viku, taki gildi 1.júlí 2008!! - og ekki seinna vænna ef einkaframtakið á að ná að sýna snilld sína á þessum óplægða akri en í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. ...Það er traustvekjandi að  hinir ungu snillingar, aðalflutningsmenn frumvarpsins, njóta stuðnings úrvalsliðs þingmanna og þingkvenna. Þessir þingmenn eru flutningsmenn ...
Jón Þórisson

21. Október 2008

VG OG SAMFYLKING SAMEINI KRAFTANA

...Ég er sammála þér í mörgu sem þú skrifar og hef tekið eftir því að margt sem þú hefur bent á í gegnum tíðina hefur staðist. Maður trúði aldrei að þetta svínarí myndi ganga til lengdar. Þrátt fyrir að þessir fjárglæframenn séu kannski stærstu syndaselirnir þá eiga stjórnvöld og stjórnmálamenn ekki minna sök á því hvernig komið er. Þar bera Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn langmesta sök og fyrir það eiga þeir að gjalda. Ég skora á ykkur forustumenn í VG að hefja strax sameiningarviðræður við Samfylkinguna og sameina þessa flokka í einn stórann og öflugan vinstri miðjuflokk. Nú er lag og það er akkúrat það sem þjóðina vantar svo hér geti risið ....
Páll Valur Björnsson

21. Október 2008

KEÐJUHANDSAL GEGN SKATTBORGARANUM


Eitt mesta sjónarspilið sem fjárglæfrakapitalistarnir hafa verið látnir komast upp með er húsaleigukapallinn. Hann gengur út á það að pólitískir handlangarar á Alþingi og í sveitarstjórnum sjá til þess að opinberar stofnanir selja húsnæði sitt en leigja þess í stað hjá húseigendum sem hafa góðan arð upp úr vösum skattgreiðenda fyrir vikið. Síðast í sumar fylgdumst við með hugmyndum Listháskólans að komast í slíka vist hjá prívatmönnum við Laugaveginn í Reykjavík. ...Peningamennirnir græða skattborgarinn blæðir. Jón Torfason skrifar umhugsunarverða grein í Frjálsa penna hér á síðunni um smíði Tónlistarhússins í Reykjavík  sem ....

20. Október 2008

Jón Torfason skrifar: MINNISMERKIÐ VIÐ HÖFNINA

Eftir hrunadans kapítalismans á Íslandi er spurning hvað á að gera við rústirnar hér á Reykjavíkursvæðinu þar sem snúningurinn um gullkálfinn var hvað hraðastur. Víða standa hálfbyggðar íbúðablokkir og smám saman hlýtur nú að takast að ljúka við þær. Líklega er verra með margs konar skrifstofuhallir, sem lítil verkefni verða fyrir í nánustu framtíð. Þeim ætti þó að vera hægt að breyta fyrir einhvers konar léttan iðnað eða jafnvel í íbúðir. En eitt er það hús sem mjög er óljóst hvað hægt er að gera við, svokallað ráðstefnu- og tónlistarhús við Austurhöfnina. Til þess var stofnað af sjálfumgleði og ofmetnaði hins nýríka. Valinn var líklega aldýrasti grunnur...

20. Október 2008

ÞARF AÐ SKIPTA UM STJÓRNVÖLD

Við fórum hjónin á útifundinn til að mótmæla ástandinu og því hvernig ráðamenn landsins eru búnir að klúðra fyrir okkur hlutunum. Það sem var hins vegar undarlegt við þessi mótmæli var að þau reyndust bara snúast um einn mann, hann Davíð Oddsson og að allt byggði á því að koma honum út úr Seðlabankanum. Við ætluðum að fara og mótmæla ríkisstjórninni og þeim sem við héldum að bæru nú ábyrðina á þessu, en þá var ekkert minnst á það. Það er náttúrulega alveg ljóst að Davíð og þeir í Seðlabankanum er með í þessu veseni og auðvitað var Davíð lengi forsætisráðherra og var að einkavæða...
Jens og Guðrún

19. Október 2008

ER ÞJÓÐIN TILBÚIN AÐ BORGA?


...Samfylkingin hefur löngum verið veik fyrir fínu fólki frá útlöndum. Í fréttum í kvöld kom enda  í ljós að hún er þegar komin á hnén. Og Geir á leiðinni. Utan Ráðherrabústaðarins spyrja menn hins vegar hvaða umboð fólk þar innandyra hafi til að leggja á komandi kynslóðir níðþungan skuldaklafa. Hverju hefur Árni Mathiesen fjármálaráðherra  lofað fyrir okkar hönd? Er hann viss um að þjóðin sé tilbúin að borga? Heldur ríkisstjórnin að hún hafi þjóðina í vasanum? Getur verið að í reynd hafi ríkisstjórnin glatað umboði til að gera það sem hún nú hefur á prjónunum? Hvað ef fólkið hreinlega neitar að borga? Ég ráðlegg ráðandi stjórnmálamönnum að fara að hugsa sinn gang. Ég ráðlegg líka veruleikafirrtu bankaliði  að spara svolítið vandlætinguna yfir því að hafa ekki fengið frekari uppbakningu og stuðning af ...

18. Október 2008

NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞÉR ÓLAFUR RAGNAR

....Kjarnafjölskyldan okkar, ég og eiginmaður minn, börnin okkar þrjú og sjö barnabörn, höfum ekki tekið þátt í þeim dansi sem nú hefur breyst í hrunadans. Við stækkuðum ekki við okkur húsnæði, við tókum ekki lán til neyslu og við reyndum að leggja áherslu á önnur gildi en þau sem tilvitnanirnar hér að ofan hvíla á. Nú stefnir hins vegar í að við, þessi litla kjarnafjölskylda, verðum skuldsett til langrar framtíðar. Við þurfum samanlagt að greiða á bilinu 40 til 80 milljónir króna ...Vegna óreiðumannanna "íslensku athafnamannanna" ef hlaupatíkur þeirra stjórnmálamennirnir sem nú eru við völd fá vilja sínum framgengt ...Nú er komið að Ólafi Ragnari Grímssyni að nota vald sitt í þágu almennings. Hann dró ekki af sér þegar hann gekk erinda athafnamannanna. Nú á hann þess kost að rétta af lýðræðishallann og standa með þjóðinni með því að beita valdi sínu og neita að samþykkja lögin sem eru í farvatninu og leyfa þjóðinni að segja...
Ólína

18. Október 2008

ALÞJÓÐA-GJALDEYRISSJÓÐUR TIL ILLS!

...Raunverulega væri Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn aðeins endalok þess sem komið er.  Þetta byrjaði allt með hersetu Breta og síðan Bandaríkjanna á Íslandi, svik við stjórnarskrá lýðveldisins, með inngöngu okkar í NATO án þess að þjóðin væri spurð. Inngangan í EES og síðan Schengen er næst, þá kom afdrifaríkt spor sem núverandi þjáningar þjóðarinnar byggjast beinlínis á, það er hin óviturlega EINKAVÆÐING sem sumir kalla einkavinavæðingu, enn án þess að þjóðin væri spurð. Þessi stjórnlausa og eftirlitslausa einkavæðing varð sá athafnajarðvegur og frumskógarlögmál, sem skapaði, hvatti og nærði þá brjálæðislegu græðgi, þjófnað, ósvífni og aðrar ...
Úlfur   

18. Október 2008

ÁFALLAHJÁLP Á STÖÐ 2

...Auðvitað! Þá er ábyrgðin á íslenskum skattgreiðendum en ekki breskum!!! Út í þetta spurði þáttastjórnandi ekkert frekar. Ekki heldur út í fullyrðingar Halldórs um að ekkert hefði verið athugavert við íslenska fjárglæfraspilið. Og ofurlaunin í heiminum voru vegna góðæris og því skiljanleg! Á daginn hefur komið að fjármálamenn voru að stela peningum frá alþýðunni. Ekki múkk frá þáttastjórnanda. Halldór dóseraði lengi vel og sagðist fagna umræðu og rannsókn. Af framgöngu þáttastjórnanda að dæma má ljóst vera að slíkrar rannsóknar er ekki að vænta í þessum sjónvarpsþætti. Þátturinn virkaði á mig einsog blanda af áfallahjálp við fjármálasukkara og daðri við tiltekin pólitísk áhugamál. Getur Stöð 2 ekki boðið upp á betra en „party political broadcast"?   
Jóel A.

18. Október 2008

100% RÉTT HJÁ VG

Já það heyrist hátt í Huginn Frey Þorsteinssyni og Sigurði Karli Kristjánssyni út af orðunum "Bankana úr landi". Hvergi hef ég séð í þingræðum Ögmundar né hjá öðrum VG um að engir bankar skuli starfa á Íslandi enda fáranlegt en hinsvegnar hafa þeir frá árinu 2005 varað við í ræðu og riti um útþenslu bankakerfisins og að rétt væri að skipta upp innlendri og erlendri bankastarfsemi. Ég held að menn hljóti að hafa misskilið þetta eitthvað en aðalatriðin sem VG vöruðu við hafa því miður komið fram 100% sem er óvanalegt hjá stjórnmálaflokki og ekki vinsælt hjá Sjálfstæðismönnum né Samfylkingunni nú í þessum ólgusjó. Mér var alltaf hugleikið af hverju Sjálfstæðismenn settu menntaðan dýralækni í embætti Fjármálaráðherra á meðan best menntaði maðurinn í peningastærðfræði Pétur Blöndal var ... 
Þór Gunnlaugsson 

18. Október 2008

HÁVAMÁL OG MEINTIR VINIR

Mér datt í hug, þegar komu tölur um atkvæðagreiðsluna um aðild að Öryggisráðinu, og Ísland var rassskellt, vísa úr Hávamálum. Held hún eigi ekki illa við nú. Ósnotur maður hyggur sér alla vera viðhlæjendur vini. Þá það finnur er að þingi kemur að hann á formælendur fáa.
Jón Torfason 

17. Október 2008

KALLAÐ EFTIR STJÓRNLAGAÞINGI

Auðvaldið nýtir sér hvert tækifæri til að kýla sínar breytingar í gegn, af eins mikilli hörku og þeim virðist óhætt í hvert sinn. IMF hefur undanfarna áratugi verið mikilvirkt tól í þeirri baráttu. En þetta vita allir sem vilja sjá! Af hverju hanga andstæðingar þessara afla í stöðugri vörn? Ég held að það sé tími til að sækja að. Mér þætti forvitnilegt að vita, hvort ekki væri hljómgrunnur fyrir því að kalla eftir stjórnlagaþingi á Íslandi. Ábyrgð stjórnvalda á þessum ósköpum er talsverð, og það væri, með fullri virðingu fyrir bæði stjórn og stjórnarandstöðu...
Herbert Snorrason

17. Október 2008

LÍFSLEIÐI OG AFLEIÐINGAR HANS

...Haustið 2008 og fram á haust 2011 verður mörgum heimilum gífurlega erfitt og kvíði ég fyrir því að hjörtu munu bresta undan álaginu þegar enga björg er að fá því er afar áríðandi að fylgjast vel með sínum nánustu og nágrönnum því öll erum við á sama bátnum í sama brimrótinu. Við skulum öll senda góðar hugsanir til ættingja þeirra sem misst hafa sína nánustu á vofeigilegan hátt og senda þeim birtu og yl í kalin hjörtu...
Þór Gunnlaugsson

17. Október 2008

ÖRYGGISRÁÐIÐ, ÖSSUR OG DRÁPSTÓLIN


Hjartanlega var ég sammála Össuri Skarphéðinssyni, starfandi utanríkisráðherra að við hefðum ekkert með breskar orustuþotur að gera til landsins í haust til að sinna „loftrýmiseftirliti". ...Reglulegar heimsóknir  til Íslands með drápstól frá NATÓ  er einn af „stórsigrum" þeirra Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar í utanríkispólitíkinni.
Annar „stórsigur" vannst síðan í dag þegar Íslendingar steinlágu í kosningu um að fá að sitja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í tvö ár. Ingibjörg Sólrún lýsti því strax yfir samkvæmt RÚV í dag „að því færi fjarri að sú vinna sem lagt var í vegna framboðs Íslands hafi verið unnin fyrir gíg." ...Geir, forsætisráðherra, sagði að Ísland stæði geysilega sterkt eftir tapið og Björn, dómsmálaráherra, líkti þessu við þjálfun fyrir heimsleika...

17. Október 2008

Huginn Freyr Þorsteinsson skrifar: SENDUM ÖGMUND ÚR LANDI

Fyrir um tveimur árum síðan bentir þú á að jöfnuði og réttlæti á Íslandi væri ekki fórnandi fyrir bankanna. Frekar mættu hinir síðarnefndu fara úr landi en að það gerðist. Við þekkjum báðir hversu margir bjuggust ókvæða við og réðust að þér og flokki okkar Vinstrihreyfingunni - grænu framboði. Í ljósi nýjustu tíðinda er fróðlegt að rifja upp ummæli manna. Veit að lesendur síðunnar hafa áhuga því að skoða eftirfarandi hlekki (persónulega finnst mér að margir skuldi þér afsökunarbeiðni). Sjá eftirefarandi slóðir....:

 

17. Október 2008

BSRB: STYRKJUM INNVIÐINA - SANNLEIKANN Í LJÓS


Aðalfundur BSRB sem haldinn var í dag sendi frá sér ályktun þar sem krafist er ítarlegrar rannsóknar á fjármálakreppunni, aðdraganda hennar og afleiðingum. Því er hafnað að láglaunafólk verði látið bera allan herkostnaðinn af óráðsíu forkólfa í efnahags- fjármálalífi okkar undanfarinn ár. Nú þurfi að stórefla innviði samfélagsins og snúa erfiðri varnarbaráttu upp í sókn. Til þess séu allar forsendur því undirstöður íslensks efnahagslífs séu þrátt fyrir allt traustar....

16. Október 2008

NÚ ÞARF AÐ HUGA AÐ ÍSLENSKUM ALMANNAHAG

Birtist í Morgunblaðinu 15.10.08.
MBL  - Logo...Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er ekki bara lögregla alþjóðauðvaldsins og mætir jafnan til leiks þegar þjóðir komast í þrot til að tryggja að almenningur standi skil gagnvart alþjóðlegu vogunarfjármagni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur líka reynst frjálshyggjusinnuðum stjórnvöldum dýrmætt skálkaskjól til að framkvæma það sem óvinsælt er með þjóðum...Og sannast sagna finnst mér það ekki góð tilhugsun að þeir Árni Mathiesen fjármálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra skuli í þann veginn að setjast að samningaborði um framtíð heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Og ekki treysti ég ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar til þess að semja um framtíð orkugeirans við fulltrúa sjóðsins...

15. Október 2008

ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN SAMUR VIÐ SIG


Merkilegt hve margir í stjórnarmeirihlutanum á Alþingi er umhugað um að fá fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að sjúkrabeði íslenska fjármálakerfisins með læknisráð og medesín.....Vissulega er það fullkomlega skiljanlegt að Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skuli vera áhugasamur um að fá Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hingað til lands sér til fulltingis...Þegar Vilhjálmi var bent á - af þessu tilefni - að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefðu aldrei haft neitt að athuga við þotukaup eða annan ferðakostnað íslenska auðmannaaðalsins og meira að segja vegsamað allt einkavædda bruðlið hér á landi í bak og fyrir og ekkert haft annað til málanna að leggja en að óska eftir meiri einkavæðingu og hærri vöxtum - þá svaraði Vilhjálmur því til að nú væru ....

15. Október 2008

ÉG BORGA, ÉG BORGA, ÉG BORGA BARA FYRIR MIG

...Ég treysti því Ögmundur að þú takir þetta mál upp á Alþingi strax á morgun. Ráðherrann verður að svara gildum rökum tveggja lögmanna sem báðir eru sérfræðingar á sviðinu sem rætt er um. Það er ekki þolandi að setja fjöregg kynslóðanna í hendur þeirra sem halda að þeir geti staðið frammi fyrir alþjóð og sagt eitt í dag og annað á morgun. A good plan today is better than a perfect plan tomorrow, sögðu þeir í Wag The Dog, en það var bíómynd. Ég bið þig að athuga það sérstaklega Ögmundur að lögfræðileg greining Stefáns Más og félaga er í fullu samræmi við það sem fram kom í viðtalinu við Davíð Oddsson, seðlabankastjóra, sem samfylkingarþinmenn vilja ómaklega kenna um fall bankanna. Kannski er það til að breiða yfir ...
Ólína

14. Október 2008

HALDIÐ RÓ MEÐAN RÁNIÐ STENDUR YFIR

...Okkur er sagt að fara heim og vera góð við hvort annað , endilega ekki hugsa um orsakir yfirstandandi kreppu eða beina reiðinni gegn ráðamönnum. Þeir eru jú önnum kafnir við að sýsla um rústirnar og endurraða á jöturnar. Það er unnið af alefli í því að takmarka skaðann fyrir auðmennina - og við eigum að borga. 
Áfallahjálp er góðra gjalda verð fyrir þá sem eiga um sárt að binda og geta ekki brugðist við - og vissulega eru þeir margir núna. En við megum ekki gleyma þeirri hjálp sem felst í samtakamættinum og afli samstöðunnar. 
Núna er ekki tíminn til þess að sitja hnípinn heima, núna er tíminn til þess að...
Kristófer

13. Október 2008

Drífa Snædal skrifar: SMÁMUNIR EINS OG UMHVERFIS-MAT OG KYNJAPÓLITÍK

Á tímum sem þessum þarf að vanda sig verulega því orð eru dýr og gjörðir líka. Fólk er dofið, hrætt og lifir í óvissu með framtíðina og færri en oft áður eru í stakk búnir til að taka þátt í lýðræðilegri umræðu. Þetta er hættulegt ástand. Fólk er sofandi á verðinum, fjölmiðlum snarfækkar og allir prentmiðlar eru allt í einu komnir í eigu sama fólks sem með svo árangursríkim hætti hefur komið þjóðinni í skuldafangelsi til framtíðar. Aldrei hefur hins vegar verið mikilvægara að tala saman, skiptast á skoðunum, vanda til ákvarðana og veita stjórnvöldum aðhald.
Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar ég heyrði í álitsgjafa í Silfri Egils í gær segja eitthvað á þá leið að nú megi ekki eyða tíma í að koma á framfæri pólitískri sýn í kynjapólitík eða Evrópuhugsjón eða svoleiðis. Nú þurfi að bjarga landinu. Einmitt það já. Þetta eru þær raddir sem ...

13. Október 2008

RÚV OHF OG FLOKKSHESTARNIR Í VALHÖLL

...Við samþjöppunina sem á sér stað í blaðaheiminum þessa dagana vex ábyrgð ritjórna blaðanna. Á þeirra valdi er  frá hverju er sagt og hvernig, við hverja er rætt og hverja ekki....Þetta kom óneitanlega upp í hugann þegar ég fylgdist með fréttastofu Sjónvarps segja frá Valhallarfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina. Þar las Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins upp skeyti til konu sinnar frá aðdáanda. Ég sá ekki betur en hann kæmist við. Í skeytinu var forsætisráðherrafrúnni þakkað að lána þjóðinni afnot af sögumanni, forsætisráðherranum, honum Geir H. Haarde. Eftir að Geir hafði lesið lofgjörðina brutust út mikil fagnaðarlæti flokkshestanna. Fréttin dó svo út og rann saman við ánægjubros fréttaþula. Er ekki rétt að vinda ofan af hlutafélagavæðingunni hið bráðasta?...
Haffi

12. Október 2008

HUGSAÐ TIL BAKKAVARAR


...Bakkavararbræður hafa byggt fyrirtæki sitt upp frá grunni af mikilli ósérhlífni og elju og þeir þekkja mótbyr og erfiðleika af eigin raun. Það vakti athygli mína þegar ég fékk tækifæri til að hitta þá Lýð og Ágúst Guðmundssyni að máli í London fyrir nokkrum misserum og kynnast starfsemi á þeirra vegum, að þar voru menn með ábyrga afstöðu til meðeigenda sinna, sem á meðal annarra voru íslenskir lífeyrissjóðir...Ábyrgð Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands sem gerði ólöglega aðför að íslenskum bönkum í Bretlandi í síðustu viku, hefur stórskert möguleika fyrirtækja á borð við Bakkavör að komast lífs af úr því gerningarveðri sem nú gengur yfir. Skömm bresku ríkisstjórnarinnar er mikil. Þeim mun ánægjulegra yrði ef Bakkavör og önnur flaggskip í íslenskum atvinnurekstri erlendis komast lífs af....

12. Október 2008

DÝRASTI STJÓRNMÁLAMAÐUR ÍSLANDSSÖGUNNAR!

...Halldór Ásgrímsson er einhver dýrasti og óþarfasti stjórnmálamaður sem við höfum átt og ætti að sjá sóma sinn í að þegja nú þegar afleiðingar hans eigin stefnu og hans flokks eru við það að setja hér allt á hausinn.
Var ekki Halldór aðalupphafsmaður að kvótakerfinu sem gerði örfáum stórgrósserum kleift að sölsa undir sig fiskimiðin? Var það ekki Halldór sem tróð upp á okkur Kárahnjúkavirkjun sem setti þensluna af stað?
Var það ekki Halldór sem einkavæddi bankana og afhenti sjálfum sér og flokksmönnum sínum annan þeirra á gjafverði og á ekki ...
Jóhann G.  

12. Október 2008

GEORG SOROS SEGIR SATT!

...Georg Soros sagði ennfremur að á tímum Regans forseta Bandaríkjanna og Margrétar Thatcher forsætisráðherra Bretlands, hafi fólk tekið alvarlega trúarjátninguna eða hugdettuna um að í frjálsu markaðskerfi, mundi markaðurinn leiðrétta sig sjálfur, sjálfkrafa, sem er bölvuð della og ein ástæðan fyrir núverandi fjárhagsvandamálum!
Hann sagði ennfremur að hann teldi að vald ...
Úlfur

12. Október 2008

ER ALÞINGI BÚIÐ AÐ GEFA ÚT HEIMILDIR?

...FME þarf með öðrum orðum að nota innviði bankakerfisins til þess að fiska uppi alla falda bankareikninga eigenda bankanna 3 á Ceyman eyjum og öðrum fríríkjum upp í skuldirnar. Skattrannsóknarstjóri hefur þegar farið með sinn bát á þau mið til fiskjar og aflabrögð eru óljós á þessari stundu en eflaust eru einhverjir með örari hjartslátt. Ummæli fjármálaráðherra að búið sé að semja við Hollendinga um ábyrgðir og verið sé að semja við Breta um ábyrgðir en hvaðan á að taka það fé? Hvar kemur Alþingi inn í þessar aðgerðir? Gaf það út opna heimild til slíks? Er þegar búið að múlbinda allt og þá þurfi að ..
Þór Gunnlaugsson

12. Október 2008

KOMUM Í VEG FYRIR HRUN Í SJÁVARÚTVEGI

...Margir skulda marga tugi milljóna vegna kvótans og ef kvótinn yrði bara hrifsaður burtu og eigendur skildir eftir með skuldirnar... þá gætu þið eflaust séð sjávarútveginn hrynja líkt og fjármálakerfi landsins. Eru ekki nógu margir að verða atvinnulausir núna? Ég vinn í fiski og er stolt af því annað en flestir Íslendingar sem finnst það skíta vinna (enda bara útlendingar sem sækja um vinnu í fiski í dag) er ég samt ekki búin að ná þrítugsaldri..
STB

12. Október 2008

ER HÆGT AÐ TREYSTA FJÁRMÁLA-EFTIRLITINU?

...Um er að ræða niðurstöðu um að allir þrír stærstu bankar íslensku þjóðarinnar standist álagspróf Fjðármálaefirlitisins. Ekki líða nema nokkrar vikur að þeir eru rjúkandi rústir. Var byggt á röngum upplýsingum og hvers vegna? Er unnt að treysta Fjármálaeftirlitinu að stýra efnahagsmálum þjóðarinnar þegar það kemst að þessari kolröngu niðurstöðu? Meðfylgjandi er fréttatilkynningin: 14.08.2008 Íslensku bankarnir standast álagspróf FME ..
Guðjón Jensson

12. Október 2008

INNSÝN Í HRÆGAMMAKAPÍTALISMANN OG ÁBENDINGAR ÓLÍNU


Illræmdur ...auðmaður, Philip Green er mættur til Íslands. Hann vill að íslenska ríkið selji sér veð Baugs í Bretlandi á gjafaprís. Látið er að því liggja að Brown forsætisráðherra Breta  muni beita sér fyrir því að allar eigur sem rekja megi til íslensks ríkisfangs verði  frystar á morgun....Ég er sammála því að andvaraleysi í þessu efni er stórhættulegt. Hver dagur  getur skipt sköpum. Það er fáránlegur barnaskapur ...að fara ekki þegar í stað í kortlagningu á eignum og flutningum á eignum landa á milli og frá einum auðmannavasa í annan.  Þetta þarf að kortleggja - því hér er um að ræða eignir okkar. Hvers vegna okkar? Vegna þess að við, börnin okkar og barnabörnin, VERÐUM LÁTIN BORGA FYRIR ÞÆR. Nú stendur stríðið um hvort stíla eigi allan reikninginn á okkur eða hvort erlendir áhættufjárfestar þurfi að taka sinn skell ... Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn passar upp á auðmenn allra landa....

11. Október 2008

FRAMTÍÐ ÍSLENSKRA BARNA

...Hvernig getur Samfylkingin notað allan tíma sinni í að reyna að koma Davíð Oddsyni frá? Af hverju setur þessi fylking bankamálaráðherrans ekki fram hugmyndir um það hvernig ná má fé af furstum einkavæðingarinnar? Hvernig stendur á því að Samfylkingin vildi helst kasta sér í fang Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Á hún enga forystumenn sem sjá lengra en nef þeirra nær? Ætlar Samfylkingin að bera ábyrð á því að óreiðumenn sem svo eru nefndir geti flúið land og skilið eftir skattakröfu á hvert einasta mannsbarn sem nemur um fimm milljónum króna? Ó, þjóð mín þjóð, vaknaðu. Sjáðu hvaða byrðar er verið að leggja á þig til framtíðar....Við heyrum stundum um útlendinga sem staðnir hafa verið að því að stela flatskjáum, myndbandstækjum og hjólum. Þeir eru oftar en ekki settir í farbann. Hvað um þá sem bera ábyrgð á því að hvert sinn sem nýr Íslendingur lítur dagsins ljós í framtíðinni þá muna ...
Ólína

11. Október 2008

EKKI MEIR HALLDÓR!


...Stjórnvöld höll undir auðmagnið vilja yfirleitt gjarnan fá Alþóðagjaldeyrissjóðinn að borði því í ráðgjöf hans fá þau skálkaskjól til að fara sínu fram. „Við erum bara að fara að ráðgjöf og skilyrðum sem okkur eru sett," er þá viðkvæðið. Um þetta segir Halldór Ásgrímsson: „Ég tel nauðsynlegt að leita til sjóðsins við þessar aðstæður enda er það hlutverk hans að koma til hjálpar. Menn kunna að óttast að hann setji ýmis skilyrði, sem hann mun vissulega gera, en það þarf hvort er eð að taka margar ákvarðanir sem munu leiða okkur inn í betri framtíð. Það er betra að hafa aðstoð við það." Þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og menn með þessa afstöðu leggja saman er ekki við góðu að búast.  En við Halldór Ásgrímsson vil ég segja...

10. Október 2008

PENINGAR OG PERSÓNUR OG SIÐFERÐI

Hjörtur skrifar furðulegt bréf um siðferði og peninga. Að seðlabankastjóri hafi sagt að þjóðin muni ekki standa við skuldbindingar sínar. Það sagði hann aldrei. Hann sagði hins vegar að það væri vert að leitast við að taka saman á skuldbindingum innanlands, hugsanlega umfram það sem lög skylda ríkið til. Bretar hafa nú ekki lagt í vana sinn að greiða skuldir fyrir aðra. Skrýtið að þeir skuli ætlast til þess af öðrum. Skuld seðlabankastjóra við heimsbyggðina er því minni, en óvildarmenn hans innan Samfylkingarinnar vilja vera láta. Bretar létu flytja alla íbúa Diego Garcia, um 30.000 manns brott fyrir nokkrum áratugum síðan, til að þeir gætu ...
Hreinn K

10. Október 2008

ALÞÝÐA ÞJÓÐAR GETUR EKKI BORIÐ ÁBYRGÐ Á GJÖRÐUM BROTAMANNA ÚR EIGIN RANNI

Ég er sammála þér gagnvart Pétri Péturssyni þul,. Ég kannaðist við hann og faðir minn þekkti hann vel. Eins var með Jón Múla og Árna bróður hans sem fjölskyldan þekkti einnig, allt ágætis fyrirmyndar menn!
Ég er einnig sammála ummælum þínum um Gordon Brown, sem er hefðbundinn auðvalds pólitíkus.
Ég mótmæli því hins vegar að íslensku þjóðinni,, íslenskri alþýðu, beri að greiða skaða sem íslenskir glæframenn valda, hvort sem það eru...
Úlfur

10. Október 2008

Á VILLIGÖTUM?

Nú ert þú á villigötum. Bresk stjórnvöld hafa nýlega lagt bankakerfinu þar í landi til 400 milljónir punda. Á sama tíma tapa bresk sveitarfélög einum milljarði punda á viðskiptum við íslenska útrásarvíkinga. Í kjölfar þess berast þær fréttir frá íslenskum yfirvöldum - meðal annars trausti rúnum seðlabankastjóra - að þau hyggist hlaupast undan öllum lögbundnum og siðferðilegum skuldbindingum sínum í málinu. Sparijáreigendur í Bretlandi geti átt sig. Sveitarfélögin sem voru svo ...
Hjörtur Hjartarson

10. Október 2008

KREPPAN GÆGIST Á GLUGGANN


...Pétur var baráttumaður. Í brjósti hans brann hugsjónaeldur sem vakti von og hvatti menn til dáða: En láttu ekki bugast, lækning þér búin er, ef leitarðu sannleikans, þorir að leggja við eyra. Og þegar baráttan hefur skilað okkur samfélagi sem breytt hefur verið til hins betra, þá mun sólin fagna okkur og verna: Og nú skaltu taka upp nýtt og betra lag, svo njóti þess allir, sem jörðin af unaði geymir. Þá heilsar þér fagnandi sólin um sumardag...

10. Október 2008

BROWN Í BARÁTTU FYRIR BROWN


En þá gerist undrið: Sem af himnum ofan berst Brown forsætisráðherra hjálpræðið. Íslenskir bankar og fyrirtæki í eigu Íslendinga í Bretlandi lenda í banvænni krísu. Þeir geta ekki staðið í skilum við skuldunauta sína. Sem hendi sé veifað geysist  forsætisráðherrann lánlausi  fram á völlinn til að taka málstað breskra sparifjáreigenda og ekki síður digurra fjárfestingasjóða, sömu fjárfesta og fjármagna kosningabaráttu einkavæðingarsinna í breskri pólitík. Harður í horn að taka hann Brown. Enga vægð gegn andstæðingnum. Sigrar Brown Íslendinga, spyrja breskir fjölmiðlar...

10. Október 2008

STARFSFÓLK BANKANNA SVIKIÐ! HVAÐ SEGIR JÓHANNA? HVAÐ SEGIR BJÖRGVIN? HVAÐ SEGIR ÁRNI? HVAÐ SEGIR GEIR?


Þegar ríkisstjórnin kynnti lagafrumvarp sem heimilaði inngrip ríkisvaldsins í bankana var sterklega gefið til kynna af hálfu ráðherra að fólki yrði almennt ekki sagt upp störfum og að það héldi meira að segja réttindum sínum. Þegar spurt var um hvers vegna lög um aðilaskipti ættu ekki að gilda var að skilja að þetta væri til þess að ríkisvaldið yrði ekki skuldbundið að varðveita siðlausa ofurlaunasamninga. Annað ætti við um almennt starfsfólk. Þetta hefur síðan verið stafað ofan í þjóðina og þá sérstaklega starfsfólk bankanna. Þið hafið allt ykkar á þurru var því sagt.
Hvað gerist svo í morgun þrátt fyrir öll þessi fyrirheit og heitstrengingar?
Í Landsbanka voru mörg hundruð starfsmen reknir...

10. Október 2008

Á FRÍMIÐA TIL BRETLANDS, AÐRA LEIÐINA

...Ég krefst þess að þeir sem bera ábyrgð á Landsbankanum samkvæmt almennum ákvæðum hlutafélagalaga og samkvæmt lögunum um fjármálafyrirtæki axli ábyrgðina sjálfir og af þeim vil ég ekkert vita. Björgólfur Guðmundsson, 67 ára, ber ábyrgð sem stjórnarformaður Landsbankans gagnvart Íslendingum og Bretum og ekki ég. Með honum geta þau borið ábyrgð stjórnarmanna að lögum Andri Sveinsson, 37 ára, Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, 57 ára, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, 43 ára, Þór Kristjánsson, 44 ára, og Þorgeir Baldursson, prentsmiðjustjóri, 66 ára. Mér finnst koma vel til greina að framselja þau ásamt bankastjórunum Halldóri Kristjánssyni, 53 ára, og Sigurjóni Þorvaldi ...
Ólína

9. Október 2008

HÖFÐINGINN

...

Til erlendra stranda hver háseti höfðingjans fór
og höndum var slegið á dýrgripi marga
en skipanna farmur var auðvitað aðeins og stór
og eignunum náðu menn varla að bjarga.


Og þegar þeir komu til baka með brotin sín fley
hann brosti í kampinn og laug að þeim öllum,
hann gaspraði mikið og hýddi þau huglausu grey
sem höfðu þó farið að ráðum hans snjöllum.
...
Kristján Hreinsson, skáld

9. Október 2008

KVÓTAKERFIÐ Á DAGSKRÁ

Þetta er góð hugmynd varðandi kvótann og orð í tíma töluð. Við þurfum að nýta tækifærið sem verður í þessari uppstokkun og gera nauðsynlegar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Jafnvel að setja á stofn auðlindasjóð eða færa fjármagnið sem fengist með leigu á aflaheimildum til sveitarfélagnna. Vona að ...
Óli Rúnar Ástþórsson

9. Október 2008

MÁL AÐ LINNI

Birtist í DV 08.10.08.
DVÍ þann mund sem samþykkt var á Alþingi lagafrumvarp um yfirtöku ríkisins á tveimur bankastofnunum sem komnar voru í þrot og á góðri leið með að setja þjóðarbúið á hliðina, var dreift á borð þingmanna gömlum  „góðkunningja" þingsins. Hér er um að ræða þingsályktunartillögu frá fjölmennri sveit Sjálfstæðismanna ... Þingmálið er byggt á stefnu  Verslunarráðsins sáluga sem nú heitir Viðskiptaráð. Í greinargerð þingmálsins...eru rakin fjölmörg dæmi um rekstur sem færa má út á markað auk þess sem bent er á mikilvæga sigra frá liðnum árum: „Fjölmörg fyrirtæki á vegum ríkisins hafa verið einkavædd og má þar m.a. nefna bankastarfsemi ....".

8. Október 2008

HVERS VEGNA ER HÁSKÓLI ÍSLANDS AÐ BERJAST GEGN ALMANNAÞJÓNUSTUNNI?


Enginn vafi leikur á því að þjóðinni finnist nóg komið af „útvistun" og einkavæðingu almannaþjónustunnar. Atburðir síðustu daga hafa fært okkur dýrkeypta lærdóma. Um langt árabil hefur Viðskiptaráðið hamast í kröfugerð í þessa veru, viljað mola úr almannaþjónustunni arðvænlegustu bitana svo fjárfestar geti gert sér þá að féþúfu. Þekktasta dæmið þessa dagana eru tilraunir til þess að eyðileggja...

8. Október 2008

ENDURHEIMTUM KVÓTANN

... Auðvitað á að þjóðnýta kvótann eða eigum við að segja endurheimta hann.  Ætli eitthvað af kvótaveðunum liggi ekki í þrotabúi Landsbankans? Þetta þarf að kanna. Gjaldþrotarhrinan, sem nú ríður yfir, sýnir betur en nokkuð annað hve fráleitt það er að setja eignarrétt sjávarauðlindarinnar á einkahendur...
Haffi

8. Október 2008

DREGUR ÚR EFTIRSPURN NEMA Á RÚV

...Allar frjálshyggju kreddurnar sem hér einkenndu umræðuna voru viðmið fjölmiðla í umfjöllun þeirra en lítt grafist fyrir um forsendur þeirra. Nú þegar þetta viðmið er hrunið og nánast allir fæddir í nýjum heimi er ekki úr vegi að gera þá kröfu til fjölmiðla að þeir grafist fyrir um orsakir hrunsins. Í þessu ljósi var það ákaflega erfitt að skilja hvers vegna Kastljósið valdi Björn Inga Hrafnsson í viðtal fyrir fáeinum kvöldum til að tala um væringarnar og hrunið. Eins og alþjóð veit að þá var Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, sem...
Hugrún

8. Október 2008

HÖFUM VIÐ EFNI Á ÞVÍ AÐ KASTA KONUM TIL HLIÐAR?

Um leið og alvaran skall á landinu hurfu nær allar konur úr fjölmiðlum. Nú var þetta alvöru, svona fullorðins, og þá er tími alvöru pólitíkusa, akademíkera, álitsgjafa og viðskiptasérfræðinga. Þar er ekkert pláss fyrir konur. Ég held hins vegar að við værum betur sett í dag ef við hefðum fólk við stjórn með fjölbreyttari bakgrunn og fleiri hugmyndir. Ekki það að konur séu endilega betri en karlar til að stjórna fyrirtækjum, bönkum og löndum, en við verðum að nýta þann mannauð sem til er og ...
Drífa

8. Október 2008

KVÓTANN Í ÞJÓÐAREIGN TAFARLAUST


Á mánudag var ríkisstjórninni veitt heimild til að taka yfir alla fjármálastarfsemi landsins til að forða þjóðinni frá gjaldþroti. Því miður var seint í rassinn gripið. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hefur beint þeirri hvatningu til okkar að  örvænta ekki hvernig sem færi. Hún vissi ekki betur en fiskurinn synti enn í sjónum. Þetta eru grundvallarsannindi. Spurningin er hins vegar hvar eignarhaldið á kvótanum liggur eftir þá gjaldfþrotahrinu sem nú ríður yfir. Lögum samkvæmt á eignarhaldið á sjávarfanginu að vera hér innan lands og samkvæmt öðrum lögum er þjóðin...

8. Október 2008

Á AÐ SVIPTA OKKUR ÆRUNNI?

Getur verið að Íslendingar ætli ekki að standa við lagalegar og siðferðilegar skuldbindingar gagnvart breskri alþýðu manna sem í góðri trú lagði peninga sína á sparireikninga Landsbankans í Bretlandi?  Ég vil minnka við mig næstu árin en glata ekki æru minni. Hvað finnst þér Ögmundur?...
Sunna Sara

8. Október 2008

Jón Torfason skrifar: EIGNIR ÞJÓÐARINNAR

Þjóðin hefur á nýjan leik eignast Landsbankann og Glitni. Það er víst hálfvegis búið að banna fólki að ásaka þá óráðsíumenn sem keyrðu bankann í þrot með vafasömum fjárfestingum og margs háttar einkasukki, svo ekki skal farið út í það að sinni. Eðlileg krafa er þó að sækja þau verðmæti sem hægt er að handfesta hér á landi og óráðsíumennirnir hafa hrifsað til sín af eignum bankans og ekki komið undan til útlanda. Hins vegar er ástæða til að velta fyrir sér hvernig hægt er að nota „eignasafn" bankans þjóðinni til hagsbóta. Ekki seinna en á morgun á að taka málverkasafn Landsbankans, sem...

8. Október 2008

ÚTRÁSAR-VÍKINGARNIR DEKKUÐU SIG MEÐ EIGNUM OKKAR

Vonandi setjið þið verkalýðsleiðtogarnir fram kröfur um að afnema verðtrygginguna og gera fólki kleift að eignast eða leigja húsnæði án þess að þurfa að drepa sig á vinnu. Þegar Danir gagnrýndu ísl. útrásina þá fannst mér alveg augljóst að fjármagnið sem víkingarnir voru að nota erlendis, voru dekkaðar með steinsteypu íslenskra fjölskyldna, sem allar eru veðsettar upp í topp (og verðtryggingin er væntanlega metin til fjár í tölfræði hins illa). Og Danir náttúrulega skyldu þetta ekki, því í Danmörku getur fólk verið á öruggum leigumarkaði alla ævi. Í viðtali í vikunni við Kaupþings-bankastjóra-dreng, sagði hann að íslensku bankarnir væru með ...
Rósa

7. Október 2008

HANNES HÓLMSTEINN FARI FYRIR NEFNDINNI

...Nú þegar fyrir liggur að Rússar ætla að bjarga Íslendingum með láni þarf að hafa hraðar hendur og senda nefnd þangað austur til að sækja féð. Það er sjálfgefið að Hannes Hólmsteinn fari fyrir nefndinni og sæki aurana fyrir vin sinn Davíð. Þetta er merkilegt fyrir þá félaga og Sjálfstæðisflokkinn. Ætli Bush viti af þessu?
Fjári

7. Október 2008

VIÐ BETLISTAF


...Þrátt fyrir þetta hefur ekki skapast neyð á Íslandi á borð við þá sem snauðar þjóðir búa við. Höfum þetta hugfast. Ekki síst áður en fulltrúar þjóðarinnar skekja betlistafinn í reiði framan í þá sem neita að ausa í okkur peningum. Þeir sem neitað hafa að afhenda okkur lausnarfé eru sagðir óverðugir vináttu okkar og sagt að nú verði leitað nýrra vina! Alvöru vina sem borga okkur fyrir okkar eigin mistök og misgjörðir. Ég frábið að láta taka okkur niður  á hnén á þann hátt sem gert var í dag frammi fyrir heimspressunni. Íslendingar hafa látið stjórnast af gróðavon, mært útrásarliðið, verið tilbúnir að hagnast á snauðum þjóðum ef svo hefur hagað til og ekki hreyft gagnrýni að neinu marki þegar fátækar þjóðir hafa verið beittar ofbeldi af „okkar" fólki.  Ekki ætla ég þó að taka það á mig að hafa setið þegjandi undir slíku...

6. Október 2008

EKKI ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐINN TAKK

Nú er mikilvægt - það er lífsnauðsyn - að markvisst verði unnið að því að vinda ofan af þessum óheillavef sem flækt hefur þjóðina í mestu vandræði sem yfir hafa dunið í seinni tíð. Ég tek undir með Þorvaldi Gylfasyni hagfræðiprófessor að við leitum ráðgjafar hjá Norðurlandaþjóðunum og hugsanlega annarrar aðstoðar af þeirra hálfu einnig. Hinu leyfi ég mér að vara við að leitað verði ásjár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum einsog prófessorinn leggur til.  Slóð þeirrar stofnunar er þyrnum stráð og sums staðar meira að segja blóði drifin. Alvarlegust eru inngrip þessarar stofnunar í málefni þróunarríkja sem stillt hefur verið upp við vegg, þær þvingaðar til að selja frá sér dýrmætar þjóðareignir og einkavæða sitt innra stoðkerfi svo gera mætti allt saman hinu alþjóðlega auðvaldi að féþúfu. Þetta hafa verið skilyrðin fyrir aðstoð...

6. Október 2008

GJALDEYRIR OG INNFLUTT HORMÓNAKJÖT

...Manni flaug í hug við að hlusta á fréttir um helgina að ekki væri til gjaldeyrir til að flytja inn bensín eða leysa út vörur (sem mun nú aðallega sagt til að undirbyggja verðhækkanir) að menn mæltu með því að "kaupa íslenskt." Þá vaknar sú spurning hvernig staðan yrði í framtíðinni ef Samfylkingunni og fylgismönnum hennar tekst að troða okkur inn í Evrópusambandið, sem mundi hafa í för með sér eyðileggingu á íslenskum landbúnaði, og að í einhverri framtíð yrði ekki einu sinni til gjaldeyrir til að greiða fyrir innflutt hormónakjöt.
Jón Torfason

5. Október 2008

AÐ MISSA SJÁLFSTÆÐIÐ

Bankamennirnir okkar hafa orðið uppvísir að siðleysi, ábyrgðarleysi og hugsanlega enn verri hlutum. Nú á að verðlauna þá með því að treysta þeim fyrir sparisjóði barnanna okkar, lífeyrissjóðunum og ríkisábyrgðum lánum. "Pakkinn" er eittþúsundogfjögurhundruð milljarðar. Það eru fimm milljónir á hvert einasta mannsbarn á Íslandi. Þetta er tuttugu sinnum hærri upphæð en stóð svona lengi í bandaríska þinginu. Hvað hefðu þeir sagt ef lagður hefði verið fyrir þá 15000 milljarða dollara pakki í staðinn fyrir 700 milljarða.
Það á alls ekki að taka þátt í neinu því sem getur orðið til að hjálpa bönkunum sem er ekki hægt að bjarga. Hér er verið að fleygja peningum. Skuldunautar bankanna ...
Hreinn K

5. Október 2008

LÍFEYRISMAÐUR TALAR EKKI Í MÍNU NAFNI

...Ég heyrði í fréttum í dag að talsmaður lífeyrissjóðanna vildi gera það að skilyrði fyrir aðkomu lífeyrissjóða að lausn fjármálavandans, að við gengjum í Evrópusambandið. Í umboði hverra talar þessi maður? Ekki mínu. Ég á peninga í lífeyrissjóði og greiði þangað reglulega. Ég hef aldrei falllist á að mínum peningum fylgdi pólitískt umboð til að ...
Jóel A.

5. Október 2008

LÍFEYRISSJÓÐIRNIR HEIM - EN AÐEINS GULLTRYGGÐIR


...Í fyrsta lagi yrðu fjármunir lífeyrissjóðanna því aðeins fluttir heim að fyrir þá fengjust ríkistryggð skuldabréf.
Í annan stað vilja forsvarsmenn lífeyrissjóðanna vita hvernig bankar og fjármálafyrirtæki ætli að axla sína ábyrgð. Ætla þau að flytja fjármuni heim , selja eignir og beina sjóðum sem þau kunna að ráða yfir til Íslands?
Í þriðja lagi  viljum við vita hvernig fjármununum yrði ráðstafað, til að tryggja að ríkið geti staðið við skuldbindingar sínar . Rynnu þessir peningar inn í almenna púlíu til að lengja dauðastríð fjármálafyrirtækja um nokkrar vikur, eða yrði skilyrt að þeir færu til að standa straum af kostnaði við skuldbindingar hins opinbera?
Þessum spurningum ...

4. Október 2008

TEKJULÁGIR OG HÚSNÆÐIS-KAUPENDUR Í HRAKNINGUM Í FORGANG

Eftir að hafa hlustað á stefnuræðu forsætisráðherra og megnið af þeim ræðum sem á eftir komu verð ég að segja að ekki fannst mér mikið til þeirra koma.  Fólkið sem þarna talaði hefur annað hvort aldrei upplifað erfiðleika eða hreinlega er búið að gleyma þeim í góðærinu sem ríkt hefur undanfarin ár hjá stórum hluta þjóðinnar.
Eins og staðan er núna í þjóðfélaginu eiga þingmenn, ráðherrar, verkalýðsforustan, samtök atvinnulífsinns og fjármálastofnanir að ...
Sigurbjörn Halldórsson.

4. Október 2008

EKKI HÆGT AÐ STINGA HÖFÐINU Í SANDINN ENDALAUST

Ég er að hlusta og horfa á alþingi og ég er sammála þér. Ég veit að það þarf að ræða fjárlög en þarf ekki að ræða miklu alvarlegri mál? Hvaða ástæðu gáfu þeir ykkur upp varðandi það að fresta þessari umræðu? Það verður að ræða efnahagsástandið núna. Er endalaust hægt að stinga höfðinu í sandinn? Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei fengið mitt atkvæði og mun ekki fá. Samfylkingin er einsog einhver sagði meðvirk húsmóðir sem reynir að halda friðinn á meðan húsbóndinn drekkur sig fullan. Fólkið í landinu er orðið þreytt á þessu ástandi en einhvern veginn er aftur og aftur kosinn þessi flokkur, sem ég kýs að kalla ...
Bryndís Kristjánsdóttir

4. Október 2008

HORTUGIR SÖKUDÓLGAR


...En hverjir vilja að við ræðum sem minnst um sökudólga? Það eru að sjálfsögðu sökudólgarnir sjálfir. Þeir sem opnuðu þjóðfélagið fyrir óheftum kapítalisma og síðan þeir sem sett hafa okkur á spil með gambli og braski. Þessir aðilar eru að vísu ekki alveg fríir sjálfir af því að vilja ekki finna sökudólga. Þeir benda á Seðlabankann sem fólið eða hið „illa ríki" sem að sjálfsögðu erum við, þjóðin, gæti verið að hagnast á yfirtöku „eigna" þeirra. Á þá lund mæltist stóreignamanni, handhafa gjafakvóta í sjónvarpsviðtali í vikunni.  Og félagi og samverkamaður hans með milljarðatuga gróða í rassvasanum frá liðnum árum, tók í sama streng og sagði að veruleg hætta væri á því að ríkið væri að hagnast á yfirtöku eigna þeirra. Eignin var Glitnir. Kominn að fótum fram og við það - ásamt öðrum fjárfestingar-monsterum - að taka okkur öll með í fallinu...

4. Október 2008

HRINDUM AÐFÖRINNI AÐ ÍBÚÐALÁNASJÓÐI!


...Á mannamáli þýðir þetta hærri vextir og þyngri byrðar fyrir skattgreiðendur.  Hvers vegna í ósköpunum þá að gera þetta? Jú, þetta bætir samkeppnisstöðu bankanna á húsnæðismarkaði og þetta er líklegra - segja þeir sem tala fyrir þessum breytingum - að forða okkur frá reiði lögfræðinga í Brussel.  Lögfræðingarnir, sem hafi sérhæft sig í heilagri markaðsritningu Evrópusambandsins, segi að húsnæðiskerfi þjóða eigi einvörðungu að stjórnast af markaðslögmálum og megi ekki eiga sér félagslegan bakhjarl. Brussel ætli hins vegar að sjá í gegnum fingur sér varðandi fátækraaðstoð...Við þessu er þetta tvennt að segja...

4. Október 2008

BRASK BURGEISANNA BITNAR Á ÞJÓÐINNI

... Það er nú stór biti sem ég þarf að kyngja sem fyrrum blámaður búinn að éta hattinn minn að þið skuluð enn einn ganginn hafa hitt naglann á höfuðið fjárglæframanna þegar maður skoðar viðvaranir þínar í þingræðum og annarra í VG og verð ég að lifa við það...Það hefur nefnilega komið í ljós að útrásin fólst í því að stofna útibú í skattaparadísum eins og fyrrverandi ríkisskattsjóri benti réttilega á í merkilegri blaðagrein og rétt að menn finni hana á MBL og lesi aftur. Hvaða hag hefur Ísland af því að setja sitt fingrafar á skattaparadísir? Hvernig stendur á því að menn sem áttu/eiga milljarða greiða ...
Þór Gunnlaugsson

4. Október 2008

BISNISMENN Á HVÍTUM SLOPPUM

Birtist í Morgunblaðinu 03.10.08.
MBL  - LogoJóhannes Kári Kristinsson, einn eigenda læknastöðvarinnar Sjónlags, skrifaði mér opið bréf í Morgunblaðið. Jóhannes er ekki bara eigandi fyrirtækisins, hann er einnig starfsmaður og sinnir augnlækningum enda titlar hann sig augnlækni undir greininni. Vandinn í samræðum við menn á borð við Jóhannes Kára er að erfitt getur verið að greina hvort maður á í orðræðu við lækni eða bisnissmann á hvítum sloppi; þar í ofanálag með pólitíska stefnuskrá. Jóhannes á sjálfur í slíkum vanda ella hefðu skírskotanir til Stalíns heitins varla dúkkað upp í grein um augnlækningar nútímans... Undir þetta tekur Jóhannes Kári; skilur ekkert í gagnrýninni því skattborgarinn borgi brúsann, af hverju ættu sjúklingar eiginlega að hafa áhyggjur? Jóhannes Kári er ekki einn um þessi sjónarmið. Hvaða fyrirtæki skyldi fúlsa við því að hafa allt sitt á þurru með greiðslum úr ríkissjóði...!

3. Október 2008

BANKARNIR EIGA EKKI ERINDI UNDIR PILSFALDINN

...Hitt er nefnilega miklu verra að við rúllum öll á hliðina, Þjóðfélagið verði gjaldþrota ef við ætlum að standa við allar þær frjárglæfraskuldbindingar sem bankarnir hafa skrifað upp á í útlöndum á undanförnum árum. Á þessu er nú raunveruleg hætta. Bankarnir eiga ekkert erindi undir pilsfald ríkisins, sem forsvarsmenn þeirra níða reyndar án afláts um leið og þeir leita þar ásjár! Hinu er ég ekki sammála Hreini Karlssyni um, að nú eigi að mynda ríkisstjórn VG og Sjálfstæðisflokks. Nú á að mynda Þjóðstjórn með aðild allra.  Þetta er eina vitlega í stöðunni. Núverandi ríkisstjórnin sýnir það ...
Grímur

3. Október 2008

ÚRRÆÐI - ÚRRÆÐALEYSI


Sláandi var munurinn á stjórn og stjórnarandstöðu í umræðum á Alþingi í gær um stefnuræðu forsætsiráðherra. Geir H. Haarde kynnti ekki stefnu ríkisstjórnar sinnar. Hann kynnti stefnuleysi hennar...Stefnuræðan var slétt og felld en ekki meir. Jóhanna Sigurðardóttir var fyrsti ræðumaður Samfylkingarinnar. Við, sem áttum von á því að hún ýtti á afgerandi hátt út af borðinu hugmyndum um að takmarka umsvif Íbúðalánasjóðs, urðum fyrir vonbrigðum. Því viti menn ...Hjá stjórnarandstöðunni kvað við allt annan tón. Hvatt var til samstöðu og samvinnu, að menn snéru bökum saman gegn þeirra vá sem steðjar að okkur. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, vísaði í varnaðarorð VG og tillögur sem fram hafa verið settar af hálfu þingflokksins á undanförnum árum og nú í upphafi þings. Hér er um að ræða alvöru aðgerðir til að taka á alvöruvanda. Á strengi þjóðarsamstöðu slógu einnig ...

3. Október 2008

FIMM STAÐHÆFINGAR GEIRS


Geir H. Haarde, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Ræðan gerði margan manninn án efa hugsi. Geir sagði m.a. um hremmingar af völdum fjármálakreppunnar:
„Öll eru á sama báti, íslensku bankarnir, fólkið og fyrirtækin..."
Er það svo? Þessir aðilar hafa vissulega ekki verið á sama báti. Gangavörðurinn í barnaskólanum hefur ekki verið á sama báti og bankastjórinn sem lætur borga sér milljarð í stafslokasamning. Á gangavörðurinn nú að gangast í ábyrgð fyrir skuldbindingar milljarðamæringsins? Eru þessir tveir komnir á sama bátinn? Er þetta svona einalt?
„Höldum áfram á þeirri braut sem við höfum markað okkur á undanförnum árum."
Er það virkilega meiningin? Ríkisstjórnin segir að nú megi alls ekki benda á sökudólga, bara hugsa um framtíðina. En eru ...

3. Október 2008

EFLUM VARNIRNAR

Birtist í 24 Stundum 02.10.08.
24 stundir...Við höfum fylgst með atganginum undanfarinn áratug eða svo. Þotur og milljarðatugir í eigin vasa. Þeir sem þannig fóru að ráði sínu voru fjárhirðarnir sem fengu ríkisbanakana afhenta fyrir nokkrum árum þegar fjármálakerfi landsins var einkavætt á einu bretti án þess að reistir væru múrar til varnar hagsmunum almennings. Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem mest hefur gagnrýnt það ráðslag að hafa peninga „án hirðis" fagnaði því mjög þegar ríkisbanakarnir voru einkavæddir og fengnir í hendur „alvöru fjárhirðum". Í umræðu á Alþingi sagði hann að markmiðið með sölu ríkisfyrirtækja og einkavæðingu, væri að „auka samkeppni á markaðnum vegna þess að fyrirtæki sem er ekki í ríkiseigu þarf að standa sig á eigin forsendum. Það getur ekki alltaf hlaupið í skjól hjá ríkinu....

2. Október 2008

NÝ RÍKISSTJÓRN OG SPÁDÓMAR VÖLUSPÁR

Nú þarf tafarlaust að skipta um ríkisstjórn. Það þarf ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og VG. Sjálfstæðisflokkurinn fengi bankamálin og sæi um að láta lögmál markaðarins virka og VG fengi Heilbrigðis og menntamál og sæi um að skipa þeim mál á réttan veg. Guðlaugur Þór, nýr bankamálaráðherra myndi láta hendur standa fram úr ermum og "stokka upp" á markaðsvísu í bankageiranum. Þar myndu sparast milljarðatugir og hundruð, í stað þessarra tuttugu milljóna hér og fimmtíu milljóna þar, sem hann er að bardúsa við í heilsugeiranum, allt á kostnað venjulegs launafólks, ef það þá yfirleitt er nokkur sparnaður því einkareksturinn hefur reynst dýrari! Framkvæmdir í virkjanamálum yrðu ...
Hreinn Kárason

2. Október 2008

Drífa Snædal skrifar: AÐ GAMBLA MEÐ VELFERÐ OKKAR ALLRA

Það er fullkomlega óáhugavert hvort við stöndum með Davíð Oddssyni eða Jóni Ásgeiri í uppgjöri síðustu daga. Við megum ekki láta troða okkur í þá skítaholu að taka afstöðu  með mönnum sem bera báðir ábyrgð á ástandinu. Davíð fór fremstur í flokki einkavæðingarinnar og lét bankana fyrir lítið fé vegna hugmyndafræði sem hefur úrelst hraðar en mjólkin í ísskápnum síðustu daga. Þá talaði Jón Ásgeir ekki um bankarán, en einkavæðing ríkisbankanna var sennilega stærsta bankarán Íslandssögunnar ef við ætlum að metast á annað borð. Jón Ásgeir tók glaður þátt í breyttu umhverfi sem gerði honum kleift að höndla með milljarða til og frá og hagnast á ógnarhraða. Jón Ásgeir, Björgúlfarnir, Bjarni Ármannsson, Þorsteinn Már og aðrir bubbar nýttu sér til hins ýtrasta lágmarks regluverk í anda nýfrjálshyggjunnar ásamt einkavæðingu ríkisstjórnarinnar og biðu svo ...

2. Október 2008

JÓHANNES Í BÓNUS OG FRUMSKÓGAR-LÖGMÁLIN

...Ég hef nokkra reynslu í verslun og fyrirtækjum og dáðist að dugnaði Jóhannesar og eiginkonu hans við reksturinn.  Þau ráku verslun Sláturfélagsins með áhuga og röskleika, eins og að þau ættu verslunina persónulega.  Ég dái þá athafnamenn sem eru þetta samviskusamir í þágu annarra ...Einkavæðingin skapaði eiginlega athafnafrumskóg án laga og "leikreglna" sem athafnamönnunum bæri að fara eftir. Það er of langt mál að fara út í þá sálma, en ofurhugi eins og Jóhannes í Bónus lét sér ekki segjast, en fór að skvetta úr klaufunum vítt og breitt, jafnvel erlendis samkvæmt hinum nýja boðskap einkavæðingarinnar og lét ekkert beisla sig, né fjötra sig...
Helgi

1. Október 2008

BANKAKERFIÐ ER SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKNUM ÞAÐ SEM SÍS VAR...

...Það er hins vegar jafn rétt að þegar fyrirtæki er komið í þrot, þá er best að drífa það af. Bankarnir á Íslandi eru komnir í þrot. Ef þeir gætu horfst í augu við það og látið sig rúlla, þá myndi íslenska þjóðin græða. Krónan myndi rétta sig af einsog skot, jafnvel samdægurs; gjaldeyrisskorturinn hyrfi (allar afborganir þeirra yrðu frystar) og útlendir lánardrottnar myndu tapa, einsog gerist í viðskiptum. Íslenska þjóðin myndi losna úr ánauð manna sem hafa ekkert viðskiptavit en öll völd og vera komin á góðan sjó innan 6 mánaða. Það vantar hreingerningu strax. Annars tapast eignir landsmanna í vonlausri baráttu fyrir vonlausum fyrirtækjum....
Hreinn K.

1. Október 2008

AÐFERÐ DAVÍÐS: OLÍA Á BÁLIÐ

...Tímabundnar lánveitingar hefðu verið mun eðlilegri og þeim hefði auðvitað verið unnt að binda sanngjörnum skilyrðum. Það hefði haft þau áhrif að kæla og róa markaðinn niður sem ekki hefði verið vanþörf á. Aðferð Davíðs Oddssonar er eins arfavitlaus og verður honum tæplega talið til mikils framdráttar þegar fram líða stundir. Í stað þess að ...
Mosi

1. Október 2008

Í GÓÐRA VINA HÓPI OG UTAN HANS

...Sjálfstæðismönnum liggur mikið á og þeir líta á að bankamál þessi séu innanfélagsmál svona rétt eins og blaðamannafundur í Valhöll þar sem persónur og leikendur eru allir í sama leikritinu. Af hverju skyldu menn úr öðrum flokkum hafa afskipti af innri málum Sjálfstæðisflokksins þótt þeir fyrir náð og miskunn þess flokks séu bankamálaráðherrar? Það gilda nefnilega önnur lögmál um sjálfstæðismennina þegar þeir eru saman í hópi þá eru menn að gefa, þiggja og veita innan ramma "ríkisafskiptanna". Samylkingarbankamálaráðherra sem boðið væri í stúku Landsbankans á Stamford Brigde með forstöðumanni lánasviðs bankans gæti átt það á hættu að boðsferðin læki í blöðin. Seðlabankastjóri eða hæstaréttardómari sem þægju slíkt boð og færu í "sjálfstæðismannahópi" gætu hins vegar verið nokkuð öruggir með sig, nema einhver næði ...
Ólína

30. September 2008

VERKALÝÐSHREYFINGIN: EKKI FRAMHALD Á ÓBREYTTU ÁSTANDI

Ráðstöfun 84 milljarða króna til að koma í veg fyrir að Glitnir verði gjaldþrota hljóta að fylgja skilyrði. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi verður að skilja að þessi fjárveiting verður ekki samþykkt umyrðalaust og án skilyrða. Í fyrsta lagi hlýtur fjárfestingarstefna bankans að verða endurskoðuð frá grunni - rannsókn fari fram á innviðum bankans og hvernig farið hefur verið með fé þar innandyra. Sjálftaka á að vera liðin tíð og menn eiga fremur að horfa til kjara ljósmæðra um viðmið í bankastjóralaunum en til tungslins ...Verkalýðshreyfingin í Evrópu hefur sent frá sér yfirlýsingu sem er að finna á heimasíðu BSRB þar sem sú krafa er reist að fjárveitingum úr opinberum sjóðum fylgi samfélagsleg ítök og áhrif...

30. September 2008

RÁÐHERRA ÁN RÁÐUNEYTIS?

"Þegar við heyrðum af þessu um helgina þá kom þetta á óvart enda ekkert sem benti til að þetta væri í uppsiglingu." Bankamálaráðherra um kaup ríkisins á 75% hlut í Glitni í viðtali við Morgunblaðið, kl. 14:37, mánudaginn 29. september 2008. "Ég fékk fyrst veður af þessu á föstudaginn þegar haft var samband við formann Samfylkingarinnar og henni gerð grein fyrir því hvað var í uppsiglingu." Bankamálaráðherra um kaup ríkisins á 75% hlut í Glitni ..."Þetta var það tilboð sem Seðlabankinn og sérfræðingar hans töldu heppilegast." Bankamálaráðherra um... Ætli hann sé sperrtur nú viðskiptaráðherrann ungi, eða skyldi hann ...
Ólína

29. September 2008

STJÓRNMÁLAMENN SKOÐI AÐFÖRINA AÐ JÓHANNI R. BENEDIKTSSYNI

Ég hef haft a.m.k. örlítið veður af þeirri aðför er Jóhann hefur þurft að sæta í starfi sínu! Mig grunar að rótin að vandanum felist m.a. í því að Jóhann hefur verið farsæll leiðtogi og tekist að þétta liðsheildina með eftirtektarverðum árangri...Mjög mikilvægt er að stjórnmálamenn skoði þetta mál til hlítar. Atburðir síðastliðna daga eru algerlega óásættanlegir! Hér er ekkert smá mál á ferðinni! Nú óska ég þess heitast, ef stjórnmálamenn hliðhollir ríkisstjórn bera ekki gæfu til að opna augun fyrir vandanum, að stjórnarandstöðunni takist að ...
Eiríkur Sigurjónsson

28. September 2008

ÆTLAR DÓMSMÁLA-RÁÐHERRA AÐ KÆRA SIGRÍÐI TÓMASDÓTTUR FRÁ BRATTHOLTI POST MORTEM?

Ég sá á vef dómsmálaráðherra að það ætti að dæma og sekta þá mótmælendur, ef ekki að loka þá inni, sem sekir fyndust um að hafa mótmælt virkjunum á Íslandi í þágu alþjóða álfyrirtækja, og taka hart á þeim sem höfðu við óspektir. Auðvitað mun þetta kosta skattgreiðendur stórfé, en hvað skal ekki gera í nafni réttvísinnar?
Þá datt mér í hug Ögmundur, hvort ekki ætti að spyrja dómsmálaráðherrann hvort hann ætli kannski að dæma...
Úlfljótur

28. September 2008

RÍKISSTJÓRNIN TEKUR Á VANDANUM - Í SÝNDARGRÆJUM


Heima fyrir gengur allt sinn vanagang, sumir ráðherranna tala um evru, aðrir kynda undir með einkavæðingarhugmyndum á sama tíma og óuppdreginn markaðskaítalismi er búinn að keyra efnahagskerfi heimsins inn í algert öngstræti. Þá bregður líka svo við hagsmunagæslumenn á fjármálamarkaði rísa upp og benda á að allt sé þetta í rauninni Seðlabankanum að kenna. Eigin óráðsía, allt fjárfestingarfylliríið, einkavinavæðingin, glórulausar stóriðjuframkvæmdir...

26. September 2008

MÓTMÆLUM AÐFÖRINNI AÐ JÓHANNI R. BENEDIKTSSYNI !

...Framkoma dómsmálaráðuneytisins, þá sjálfs dómsmálaráðherra, er óréttlát og algjörlega ólíðandi gegn einum besta lögreglumanni landsins, Jóhanni R. Benediktssyni!  Ég vona að almenningur mótmæli harðlega, og að dómsmálaráðherra sýni sóma sinn og sjái að sér, að öðrum kosti segi af sér. Ég vona að stjórnarandstaðan beiti sér harðlega gegn þessu óréttlæti og heimsku, Jóhann R. Benediktsson er fyrirmyndar lögreglustjóri í erfiðasta lögregluembætti ...
Úlfur

25. September 2008

UM FRELSUN ORKUGEIRANS

SAMFYLKING - AUÐHYGGJA
...
Hvað á þá að segja um nýjasta nýtt frá Samfylkingunni sem ég efast ekki um að skemmti einhverjum. Alla vega leiðarahöfundi Morgunblaðsins sem ekki á orð af hrifningu yfir þeirri tillögu Helga Hjörvars, Samfylkingaþingmanni að nú sé ráð að einkavæða einstakar orkuveitur og gera þær að fyrirtækjum undir handarjaðri fjárfesta á markaði: „Með því að frelsa þau úr opinberu eignarhaldi skapast grundvöllur fyrir orkuútrás..."... Þegar síðan skyggnst er á bakvið allt talið um útrásarvíkingana á sviði orkumála þá er það ekki hjálpar- og uppbyggingarstarf sem vakir fyrir fjárfestunum heldur hvernig græða megi á því að komast yfir auðlindir annarra þjóða. ...

25. September 2008

VILL GANGA Í ESB OG RANNSÓKN Á BANKABRASKI

...Gera þarf einnig kröfu um opinbera rannsókn á braski bankanna og þeim tölvupósti starfsmanns LI sem óvart fór á vitlausan stað sem sannar að bankarnir eru sjálfir að braska með gjaldeyrinn okkar til að laga stöðuna sína fyrir hluthöfum sínum á þessu uppgjörstímabili. Loka þarf fyrir svona brask strax í Seðlabankanum og þess vegna senda alla bankastjórnina í frí. Ögmundur þjóðin treystir á ykkur í VG að verja okkar...
ÞG

24. September 2008

HVER TALAR MÁLI ALMENNINGS?

...Eða átti utanríkisráðherra kannski við Bjarna Ármannsson, Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólf Thor Björgólfsson, Björgólf Guðmundsson, Halldór Kristjánsson, Sigurð Einarsson, hinn bankastjórann og Ólaf Ragnar Grímsson? Enginn þessara útrásarvíkinga tapar á kreppunni. Allir hafa þeir komið ár sinni þokkalega fyrir það borð sem íslensk alþýðuheimili þyrftu að hafa nú til að bera fyrir sig þegar báran ríður yfir. Þegar þannig stendur á er það óforsvaranlegt að henda á loft skemmtifrösum auglýsingastofunnar...En mér fannst þegar ég hlustaði á viðtalið við Davíð Oddsson og las niðurlag viðtals við þig í Morgunblaðinu á dögunum að þið væruð að tala um sama hlutinn svo ólíklegt sem það nú er. Báðir að tala um liðið sem spilaði rassinn út buxunum og hafði svo ekki þrek til að borga reikninginn heldur sendi hann á almenning. Skilji ég seðlabankastjóra er hann í raun að tala fyrir hagsmunum almennings. Sértu sammála þá finnst mér ástæða til að ...
Ólína

24. September 2008

SPURÐU PÁL


Um leið og ég óska Óðni Jónssyni, nýráðnum fréttastjóra sameinaðrar fréttastofu hljóðvarps og sjónvarps á RÚV ohf. velfarnaðar í starfi, vil ég vekja athygli á ráðningarmátanum. Hinn nýi fréttastjóri er ráðinn án auglýsingar og samkvæmt ákvörðun eins manns, Páls Magnússonar, útvarpsstjóra. Þetta er alla vega skilningur hins nýráðna fréttastjóra. Í DV, miðvikudaginn 17. september, er hann sem "maður dagsins" spurður, af hverju þú en ekki Elín Hirst? Ekki stóð á svari...

23. September 2008

MEÐHJÁLPARI FÆR KLAPP Á KOLLINN

Birtist í Fréttablaðinu 22.09.08.
Fréttabladid hausÁgætur þingmaður Samfylkingarinnar sagði í laugardagsþætti Hallgríms Thorsteinssonar fyrir viku að flokkur sinn hefði verið stofnaður um velferðarþjónustuna. Ég saknaði þess að viðkomandi var ekki spurður hvers vegna Samfylkingin kæmi þá ekki velferðarkerfinu til varnar þegar að því væri sótt. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, messaði yfir félögum sínum í Valhöll um helgina. Hann lofaði og prísaði Samfylkinguna, sagði að án hennar hefði ekki verið hægt að koma á lögum um nýja sjúkratryggingastofnun, sem væri forsenda þess að koma mætti á markaði...

22. September 2008

SPEGILMYND

Í fægðum spegli birtist mynd af mér
og máttur hugans einfaldlega sér að
víst er bæði spáð og spekúlerað
er spegilmyndin kveður mig og fer.
.....
Kristján Hreinsson, skáld

22. September 2008

UM RÁÐSTÖFUN RÍKISFJÁR OG HÖMLULEYSI

...Megintekjumeiðurinn mun vera ríkisframlag eftir reiknistokk menntamálaráðherra. Þekkt er góðlyndi þess hóglynda Björns Bjarnasonar í garð skólans. Er hér um geypifé, almannafé, að ræða. Þessu til viðbótar nýtur skólinn marvíslegra framlaga fyrirtækja og félagasamtaka. Ekki veit ég hvað það er mikið. Loks eru tekin veruleg skólagjöld af nemendum skólans, fyrir ókunnuga eru slík gjöld nauðsynleg að margra hyggju til að efla alla -kennara- dáð og um leið skilning nemenda á því að lífið sé ekki ókeypis. Skólagjöld í HR nema 137.000 kr. í laganámi á yfirstandandi önn. Alls þyrfti 219 slík framlög til að jafna eingreiðsluna til Guðfinnu. Má þetta virkilega? Ég segi ekki annað.
Ófeigur í Skörðum

21. September 2008

AUÐVALDIÐ AÐ VERKI!

...Almenningur verður að vakna og taka í taumana áður en þjóðin sekkur í síkisforina með Geir, Ingibjörgu, Bush og félögum þeirra. Við verðum að skilja í eitt skipti fyrir öll að eina fjárhagskerfið sem hentar Íslensku þjóðinni, er þjóðlegt, samfélagslegt blandað hagkerfi sem er rekið opið og lýðræðislega í þágu íslensku þjóðarinnar, ekki lokað einræði, sérsniðið til að þjóna gráðugum einkaaðilum sem ætla sér eingöngu að græða á þjóðfélagssystkinum sínum án vinnu, án þess að skapa nokkur verðmæti , án þess að skilja nokkuð eftir sig nema svik og svínarí!!!
Úlfur      

21. September 2008

HVORT ÞARF AÐ SENDA Í MEÐFERÐ LÁRUS EÐA INGIBJÖRGU?


...Lárus Welding talaði reyndar líka um nauðsyn þess að þétta raðirnar. Ég held að það hafi verið í setningunni á undan þessari um orkugeirann, að nú þyrfti að beina gróðasókninni þangað. Hann minntist ekki á heilbrigðisþjónustuna. Það kom mér svolítið á óvart því Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hefur lagt áherslu á að þar séu að opnast miklir möguleikar. Kannski er þetta einhver verkaskipting í fjárfestahópnum. Kannski ætla einhverir aðrir að nýta sér þá hetjudáð Samfylkingarinnar að samþykkja sjúkratryggingastofnun Guðlaugs Þórs, einkavæðingarráðherra heilbrigðismála. Stofnunin hvílir, sem kunnugt er, á lögum sem skilgreinir öll samskipti í heilbrigðiskerfinu á viðskiptavísu. Þetta auðveldar...

21. September 2008

GUÐINN HEITIR GRÆÐGI


Eftirfarandi er viðtal Kolbrúnar Bergþórsdóttur við ÖJ í Morgunblaðinu 20.09.08.:
...Við erum eljusöm þjóð með merka sögu. Hér er fjöldi stórra og smárra fyrirtækja sem eru í ágætum rekstri. Við erum vel menntuð, eigum gríðarlegar auðlindir. En við höfum verið að fara afturábak undanfarin ár vegna þess að vírus frjálshyggjunnar hefur hreiðrað svo rækilega um sig. Þeir sem ráða eru hættir að trúa á heilbrigða skynsemi, hættir að trúa á skapandi atvinnurekstur. Nú er það bara braskið sem blívur. ...Þegar menn tala um það í fullri alvöru að fara með heilbrigðisþjónustuna og orkukerfið, innviði samfélagsins, út á þetta sama markaðstorg þar sem mönnum hefur mistekist jafn herfilega og dæmin sanna þá hlýtur maður að vara við því. Ég vil að sjálfsögðu ....

21. September 2008

FINNUR OG GUÐLAUGUR ÞÓR


...Hið óhugnanlega við þessa þróun er hvernig fjárfestingargeirinn er farinn að renna hýru auga til heilbrigðisþjónustunnar og horfir til Guðlaugs Þórs með nákvæmlega sömu væntingum og fjármálageirinn og rafmagnsgeirinn horfði til Finns Ingólfssonar á sínum tíma. Finnur brást þessum aðilum ekki. Hann einkavæddi bankana, rafmagnseftirlitið og heita vatnið og við vitum hvert framhaldið varð. Guðlaugur þór er nú að færa heilbrigðisþjónustuna eins og hún leggur sig upp á færiband markaðsvæðingar...

20. September 2008

UM FJÁRSVELTA LÖGGÆSLU OG FLEIRA

...Sem löggukall á eftirlaunum þá má ég til með að vekja athygli á þeirri staðreynd að löggæslan er á brauðfótum og svo gæti farið að borgarar landsins yrðu að bjarga sér á eigin spýtur í einhverjum tilfellum. Launakjörin eru líka með þeim hætti að þetta er ekki aðlaðandi og ýmislegt fleira sem ég ætla ekki að fara út í hér. Hvaða heilvita fjárveitingarmanni datt það í hug í fjölmenningarsamfélagi að kostnaður embætta yrði ekki mikill eins og dæmin sanna og á bara eftir að aukast. Túlkaþjónusta er mjög dýr svo og réttargæslumenn og fleira sem embættin þurfa að leggja út fyrir og mikla aukavinnu í sumum tilfellum við rannsókn mála að kröfu ákæruvalds því að þróunin hefur verið sú í okkar réttarríki að réttur sakborninga er langt umfram rétt þolenda. Að hafa einn mann á bíl í umdæmi Selfoss er bara brandari og að...
 Þór Gunnlaugsson

19. September 2008

Sigríður Kristinsdóttir skrifar: TRÚBOÐ ALÞINGIS-MANNSINS

Það undrar mig hvers vegna Sigurði Kára Kristjánssyni er svo í mun að níða niður ákvarðanir heildarsamtaka BSRB um að bjóða þekktum fræðimönnum að fjalla um afleiðingar einkavæðingar heilbrigðiskerfisins. Ég er búin að vinna með hléum í heilbrigðiskerfinu frá því  l968 og hef hlustað á margan fyrirlesturinn um hvað nauðsynlegt sé að einkavæða helst sem mest, svo að hægt sé að brjóta niður það heilbrigðiskerfi sem við höfum. Eitt sinn hlustaði ég á ... Því hef ég verið mjög ánægð með það að heildarsamtök mín, sem er BSRB, hafi undanfarin fjögur ár fengið tvo virta fyrirlesara  frá frændþjóðum okkar ...

18. September 2008

MORGUNBLAÐIÐ VERÐUR SÉR TIL SKAMMAR

Birtist í Morgunblaðinu 17.09.08.
MBL  - LogoÞað er ótrúleg ósvífni gagnvart þeim fræðimönnum sem hér eiga í hlut hvernig ferill þeirra er afbakaður og svertur af hálfu ritstjórnar Morgunblaðsins.......Og höfundur Reykjavíkurbréfsins heldur áfram og leggur að jöfnu allan almennan atvinnurekstur, verslun og viðskipti og síðan heilbrigðisþjónustuna...Í ljósi þess hvernig nú er komið fyrir mörgum fyrirtækjum og jafnvel heilum starfsgreinum sem fjárfestar hafa farið höndum um á undanförnum árum, þá hlýtur það að teljast fífldirfska í meira lagi að reyna að telja þjóðinni trú um að nú sé um að gera að koma heilbrigðisþjónustunni á Íslandi út á fjárfestingarmarkað...

17. September 2008

TILLAGA AÐ DAGSKRÁREFNI FYRIR RÚV

Ég sakna þess að Ríkisútvarpið sýni ekki meira af eldra dagskrárefni þar sem mikið er til af góðu efni. Þessa daga væri tilvalið að endursýna verðbréfahorn Kastljóssins sem var fastur punktur í tilverunni fyrir all mörgum árum. Var þá alltaf fastur viðmælandi Kastljóssins vatnsgreiddur bankamaður sem kættist mjög yfir hækkandi úrvalsvísitölu og mælti með kaupum í fyrirtækjum. Þuldi hann þindarlaust yfir spenntum landslýð hvernig Fúdjí, Nasdaq, Nikkei og Dow Jones hækkuðu. Viðkvæði var ekki hvort að almenningur ætti að kaupa hlutabréf heldur að beinlínis hefði hann ekki efni á því að sleppa því. Ef að RÚV er ekki ...
Hannes frá Ytra Nesi

17. September 2008

TAKK FYRIR KILJUNA


Dagskrárgerð þarf ekki að vera kostnaðarsöm til að vera áhugaverð. Hvers vegna finnst mér Kilja Egils Helgasonar vera gott sjónvarpsefni? Sennilega er margt sem veldur: Viðfangsefnið skemmtilegt; bókmenntir og áhugavert fólk, stundum kynlegir kvistir, efnistökin í senn örugg og afslöppuð og útkoman því góð. Að þessu sinni var staðnæmst við Málfríði Einarsdóttur, rithöfund. Fyrsta bók Málfríðar kom út árið 1977 en þá var hún komin hátt á áttræðisaldur. Það var Samastaður í tilverunni, en tilefni umfjöllunar Kiljunnar í kvöld um Málfríði Einarsdóttur  var að þessi bók var að koma út í nýrri kiljuseríu Forlagsins. Málfríður bjó yfir óvenju frumlegri hugsun:  „Ætíð hef ég átt samastað, að minnsta kosti hefur aldrei farið svo, að ég hafi þurft að vera hvergi ..."  Í þættinum fengum við að ...

16. September 2008

ENGAR BLIKUR Á LOFTI HJÁ RÁÐGJAFA GEIRS

Efnahagsráðgjafi forsætisráðherra sagði margt athyglisvert í sjónvarpsviðtali í kvöld, sem vert er að skoða.
1. Hann lýsti því yfir að bönkunum yrði bjargað ef á þyrfti að halda.
2. Hann kallaði það að tugþúsundir manna hafa misst vinnuna á örfáum dögum, "hreingerningu".
3. Hann hélt því fram að það væri markaðurinn sem sæi um "þrifin". Það er ósatt. Fannie Mae og Freddie Mac voru yfirtekin af ríkinu. Bear Sterns að hluta einnig.
4. Hann sagði að það væri gott að nota viðskiptabankana sem "grunn" til að stunda fjárfestingastarfsemi. Það er rétt að þessi grunnur er að redda bönkunum í dag, en þeir eru hins vegar ekki að stunda eðlileg viðskiptalán á meðan, þar sem þeir eru að fá "lánuð" innlánin til að borga skuldir sem stofnað var til í casinoi ...
Hreinn Kárason

16. September 2008

TRYGGVI ÞÓR OG ÓSÝNILEGA HÖNDIN


...Aftur og aftur gerðist efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde, forsætisráherra mótsagnakenndur. Þannig sagði hann annars vegar að markaðurinn  - það sem frjálshyggjumenn af trúarlegri lotningu kalla hina ósýnilegu hönd - myndi bjarga öllu - og taki menn eftir orðalaginu: Þegar tugþúsundir manna missa atvinnu sína (Lehman Brothers)  þá kallast það hreingerningar í kerfinu! Hins vegar segir hann að ríkið muni koma inn með afgerandi hætti til bjargar bönkunum.  Auðvitað var það stóra fréttin í viðtalinu við efnahagsráðgjafa forsætisráðherra, að hann gaf sterklega í skyn að bönkunum yrði bjargað. Af hverju? Er ekki rétt að láta markaðinn bara gera hreint? Og  hverjum á að bjarga? Fjárfestingunum, sem bankarnir fá ekki lengur lán til að fjármagna?...

16. September 2008

MISSKILNINGUR AÐ AÐGREINA VIÐSKIPTABANKA OG FJÁRFESTINGARSJÓÐI?


Í viðtali í Kastljósi Sjónvarpsins í gær sagði Björn Ingi Hrafnsson að „sá misskilningur hefði verið uppi" hér á landi að aðskilja bæri viðskiptabankana og fjárfestingarbankana. Ég lagði við hlustir því ef þessi misskilningur hefur verið uppi þá er ég sekur um að vera haldinn honum því frá árinu 2003 hef ég verið flutningsmaður - nú síðast á haustþingi ásamt Jóni Bjarnasyni - að frumvarpi sem gengur nákvæmlega út á þetta...Nú kemur hins vegar á daginn hvar styrkur bankanna liggur. Þeir „njóta tryggingar" eins og Björn Ingi segir, fyrst og fremst í krafti þess að hafa almenn viðskipti innandyra. Það sem spyrja þarf um, er hið gagnstæða við það sem Björn Ingi gerir en hann nálgast málin, þykir mér, út frá sjónarhóli fjárfestingarbankanna: Hvernig verða almennir viðskiptavinir bankanna, þeir sem háðir eru  „hefðbundinni bankastarfsemi" , tryggðir í ...

16. September 2008

ÞEGAR ÞEKKINGIN TAPAR FYRIR HUGMYNDA-FRÆÐINNI

...Á Íslandi er þessu öfugt farið. Þar hefur viðskiptabankastarfsemin nánast þjónað sem smurning á hina miklu fjárfestingarbankamaskínu íslensku bankanna þriggja. En galdurinn á bak við hraða uppbyggingu þeirra hefur hins vegar verið umsýsla með ævisparnað Íslendinga: Lífeyrissjóðina.
Í viðtali við BBC í dag (15. sept 2008) sagði þáverandi fjármálaráðherra Clinton´s Lawrence Summers, að afnám Glass-Steagall laganna hafi verið mistök. Mistök! Nú er rík ástæða fyrir bestu menn þjóðarinnar leggja við hlustir.  Aðgreiningu trygginga, heildsölubanka og almennra viðskiptalána verður að koma á þegar í stað, annars munu ekki aðeins bankarnir tapa heldur einnig vel stæð fyrirtæki og einstaklingar.
Björn Jónasson

15. September 2008

VILL RÍKISSTJÓRN FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU

...Hann var með það alveg á hreinu hvað Steingrímur hafði farið oft í ræðustól og talað mikið í þinginu en mundi svo engar tölur um ríkisskuldirnar. þú hefur verið eitthvað að angra þá íhaldsdrengina með myndskreytingum þínum hérna á síðunni og svo mega náttúrulega okkar samtök, BSRB, ekki vinna fyrir okkur opinbera starfsmenn þá er það pólitík alveg eins og bændasamtökin mega ekki vinna fyrir bændur þá eru þau kærð. það er orðið skrítið þjóðfélag þegar auðmenn mega setja okkur svo gott sem á hausinn með græðgi og glannaskap en ganga samt um eins og heilagir menn og enginn segir neitt, en stéttarfélög mega ekki verja sína félagsmenn. Er ekki hægt að  ...
Jón frá Læk

15. September 2008

ÞEGAR RÖKIN ÞRÝTUR...

Mikil var málefnafátæktin í Silfri Egils í gær þegar kom að umræðu um nýsett lög um Sjúkratryggingar. Málefnið sjálft var ekki rætt og kom það svo sem ekki mjög á óvart eftir að hafa hlustað á umræðuna á Alþingi. Þar var þegar orðið ljóst, að Sigurður Kári og fleiri úr hans hópi, réðu ekki við þig og félaga þína úr ræðustól. Þeir voru rökþrota og gripu þá til þess örþrifaráðs að ófrægja þig og BSRB fyrir að hafa aflað þeirra upplýsinga sem þið lögðuð fram máli ykkar til stuðnings. Lágt þykir mér risið á kappanum. Ég frábið mér ...
Sjöfn Ingólfsdóttir

14. September 2008

HOW DO YOU SLEEP AT NIGHT?

...Það er alltaf verið að tala um hátt lyfjaverð á Íslandi. Er ekki rétt að fara að tala um lækniskostnaðinn áður en Pétur Blöndal bregður töfrastafnum á loft og gera kröfu til þess að sjúklingar greiði svipað fyrir þjónustuna heima og þeir greiða til dæmis fyrir hana hér? Það er einkennilegt að Samfylkingin skuli vera skilgreind nauðsynleg forsenda fyrir því að hleypa einkaaðilum í veski sjúklinganna. Er það misskilningur að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, sú sem ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur sögðust vera hagsmunagæslumenn sjúkra, aldraðra og öryrkja, sé stýrimaður hjá Pétri Blöndal í nefnd stjórnarflokkanna? Sé svo hlýtur hennar vandi að vera ærinn. Enginn einn þingmaður hefur jafn oft sakað fyrrum samherja sína í Framsóknarflokknum fyrir alvarleg svik, lögbrot og fantaskap...
Ólína

14. September 2008

ÁHYGGJUR AF KJARADEILU LJÓSMÆÐRA

Ttakk fyrir gott viðtal í útvarpinu um daginn um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu, ég hef miklar áhyggjur af að það sé verið að svelta heilbrigðiskerfið til að fara í einkavæðingu, og þá vitum við í hvaða hendur heilbriðiskefrið lendir, til þeirra sem eiga peninga, og skjólstæðingurinn verður ekki lengur skjólstæðingur heldur viðskiptavinur hvað hann er tilbúinn að borga eða hvað mikið hann getur borgað. Ég hef miklar áhyggjur af kjaradeilu ljósmæðra og hvort þessi deila sé hluti af því að koma einkavæðingu á, það er erfitt að hugsa til þess að ef ekki semst við þær þá hætti margar ljósmæður og það verður kjörið tækifæri...
Guðrún

14. September 2008

LÖGREGLAN FAGLEG

Ég rakst á óvild og gífuryrði í garð lögreglu og yfirmanna hennar hér á síðunni þinni vegna rannsóknar þeirra á útlendingum sem hér dveljast við talsverðan kostnað úr vösum skattgreiðenda.  Lögreglan gerir sitt verk faglega sem þeir fá litlar þakkir fyrir og sama má segja um yfirmenn þeirra allt upp í háttvirtan dómsmálaráðherra!  Ef ég ætlaði að gagnrýna störf lögreglunnar, Jóhanns R. Benediktssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum og Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, væri það í þá veru að þeir taki of linum tökum á þessum vanda, frekar en hinu gagnstæða....
Helgi G.

14. September 2008

UM SEÐLABUNKANN Á BESSASTÖÐUM

Myndskreyting hér á  síðunni hefur verið nokkuð til umræðu að undanförnu og hafa menn haft af því áhyggjur að viðkvæmt sálarlíf heilbrigðisráherrans kunni að hafa skaddast varanlega á því að fá höfuð sitt sett inn á mynd, beint ofan á búkinn á  Frakklandsforseta að heilsa Gaddafi  suður í Trípoli. Auðvitað eru svona falsanir ósvífnar...
En hvað um það, tilefni þessa bréfs er seðlabunkinn á Bessastöðum. Þú segir í pistli hér á síðunni að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi unnið góðan varnarsigur með því að fá frestun á breytingu á eftirlaunalögunum...Með því að sýna peningastaflann á gólfinu á Bessastöðum fyrir ofan pistilinn, ert þú að láta í veðri vaka að ráðherrarnir hafi verið að...
Sunna Sara  

14. September 2008

MYNDMÁLIÐ LÍFGAR UPP Á

Ég hef ekki getað annað en rekið augun í þessar myndasamsetningar hjá þér, þær lífga skemmtilega upp á tilveruna og þessa hefðbundnu stjórnmálaumræðu sem oft er frekar íþyngjandi á köflum. En svona fyrir mig sem leikmann er möguleiki að ég geti gert þetta með mína tölvukunnáttu ...?
Kær kveðja,
Stefán 

14. September 2008

UM DÓMSMÁLA-RÁÐHERRANN OG HIRÐMENN HANS

...Kjarni málsins er sá að í þessu tilviki er beitt níðingsbragði gegn hælisleitendum á  Íslandi. Þeim er valinn einkunn sem líklegir falsarar, lögbrjótar og svindlarar , jafnvel eituryfjaskúrkar og allur hópurinn fær harðan skell frá opinberu valdi, ólíkt fólk frá ólíkum heimshlutum, sem allt á þó að búa við fullkomin mannréttindi hér á landi. Þetta níðingsverk verður ekki afsakað eðabætt. Skömmin verður minnismerki verksins...
Baldur Andrésson

13. September 2008

SKOTIÐ YFIR MARKIÐ

Sem formanni míns félags BSRB finnst mér að þú hafir skotið yfir markið með mynd af GÞÞ við hlið Gaddafis og finnst mér að þú ættir að fjarlægja hana af síðunni og biðja viðkomandi afsökunnar. Það þarf að gæta að sér sem formanni stærsta stéttarfélags landsins og alþingismanns að gera sig ekki marklausan með svona strákapörum. Ég las bækling þessa sérfræðings sem þýddur hefur verið og lesið frumvarpið sl.2 daga enda á eftirlaunum og nægur timi. Ég þekki GÞÞ persónulega sem góðan dreng þótt ég hafi gengið úr flokki blámanna nýlega...
Þór Gunnlaugsson 

13. September 2008

VARNARSIGUR RÁÐHERRANNA


...Flestir stóðu í þeirri trú að Samfylkingin ætlaði að afnema sérréttindi þingmanna, embættismanna og ráðherra ef hún kæmist í ríkisstjórn. En ef litið er á þennan hóp sem kjarabaráttuhóp  sem við hljótum að gera í ljósi reynslunnar, þá verður að viðurkenna að hann hafi náð sæmilegum árangri, sérstaklega ráðherrahluti hópsins.
Á einu ári hafa ráðherrar í ríkisstjórn tryggt sér lífeyrishækkun   UMFRAM aðra starfsmenn ríkisins að upphæð 23.610 krónur á mánuði. Frábær árangur miðað við 20.300 kr. launahækkun sem samið var um við almenna starfsmenn ríkisins í vor...

13. September 2008

TVÆR KONUR Í LAUGARDAGSMOGGA


...Þriðjungurinn af fyrrnefndu opnuviðtali við ráðherrann er af höfði Guðlaugs þórs ráðherra, sennilega til að tryggja að enginn velkist í vafa um á hvaða búk það sitji. Þessi líkn gagnvart Guðlaugi Þór er unnin af Kolbrúnu Bergþórsdóttur, en hún virðist hafa fengið sérstakt hlutverk á blaðinu sem eins konar pólitísk Florence Nightingale fyrir stjórnarmeirihlutann ...Síðan er það Guðfríður Lilja Grétarsdóttir með sinn vikulega laugardagspistil í Morgunblaðinu. Hún hefur sýnt það í skrifum sínum að hún þarf enga opnu til að koma boðskap sínum á framfæri enda einhver besti penni landsins. Alltaf er það...

12. September 2008

HVAR ER FEMINSTINN INGIBJÖRG SÓLRÚN?

Ljósmæður eru í verkfalli og öryggi mæðra og barna er ógnað. Þingkona Vinstri grænna Alma Lísa Jóhannsdóttir spurði Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra og formann Samfylkingarinnar út í ljósmæðraverkfallið. Ingibjörgu tókst það afrek að svara fyrirspurninni án þess að minnast orði á ljósmæður. Hún nýtti tímann sinn til að útskýra á hrokafullan hátt hvernig kjarasamningar og launamunur kynjanna virkar. Það var ekki spurt að því!  Ríkisstjórnin sem Ingibjörg Sólrún situr í hefur gullið tækifæri til að ...
Drífa

12. September 2008

Finnur Dellsén skrifar: GAGNFLAUGA-KERFIÐ OG "VIRKA UTANRÍKIS-STEFNAN"

...Norðmenn hafa lagst gegn kerfinu á vettvangi NATO, enda er kveðið á um það í stjórnarsáttmála norsku rauðgrænu ríkisstjórnarinnar. Margir vonuðust til að íslensk stjórnvöld gerðu hið sama eða tækju í það minnsta undir með Norðmönnum. En í Kastljósþætti mánudaginn 25. ágúst var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, spurð um gagneldflaugakerfið og aðkomu NATO. Ingibjörg kannaðist ekki við að málið hefði verið rætt á vettvangi NATO og gaf í skyn að hún kæmi ekki til með að styðja slíkt kerfi ef það kæmi til umræðu innan hernaðarbandalagsins. Þetta kom mörgum í opna skjöldu því þarna talaði sami utanríkisráðherra og ...

11. September 2008

GUÐLAUGUR ÞÓR OG FINNUR


.. Harðdrægastur í einkavæðingunni var Finnur Ingólfsson enda hamhleypa til verka. Sá var vandinn. Hann hamaðist með bankana og rafmagnseftirlitið ( þið munið eftirlitið sem Frumherji sinnir nú, fyrirtækið hans Finns). Á þessum tíma var farið að tala um einkavinavæðingu. Póstur og sími var settur á færibandið  og Áburðarverksmiðjan var seld - gefin, væri kannski nákvæmara orðalag. Yfirleitt gat Sjálfstæðisflokkurinn hallað sér makindalega aftur í stólnum á meðan Finnur verkstýrði einstökum ferliverkum innan þings og utan. Nú blása aðrir vindar í Framsókn... En þótt Ágúst Ólafur sé liðtækur sem aðstoðarmaður við markaðsvæðingu samfélagsþjónustunar hvílir verkstjórnin á hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra. Hann hefur tamið sér ...

11. September 2008

ALLT UPP Á BORÐIÐ - ALLTAF

Birtist í DV 10.09.08.
DV...Þegar skarast  stjórnmál og atvinnustarfsemi þá viljum við að allt sé uppi á borði. Ekki til að hengja viðkomandi stjórnmálamenn upp, heldur líka til að hreinsa þá af röngum ásökunum ef um slíkt er að ræða. Þess vegna eiga allar upplýsingar að vera opinberar hvað varðar fjárhags- og hagsmunatengsl í stjórnmálum, eins og VG hefur ítrekað lagt til. ...Sérstaklega þurfa menn að vera á varðbergi þegar um það er að ræða að bæjar- eða borgarfulltrúar eða þá þingmenn, vinna að því að koma verkefnum sem verið hafa í samfélagslegri þjónustu út á markaðstorgið þar sem þeir sjálfir eða einstaklingar og fyrirtæki þeim tengd bíða með vatnið í munninum að hremma bitana...

11. September 2008

VILL MORGUNBLAÐIÐ AÐ ÞJÓÐIN SOFI?

Birtist í Morgublaðinu 10.09.08.
MBL  - Logo...BSRB hefur látið sig íslenskt velferðarkerfi miklu skipta. Það er í senn vinnusvæði félagsmanna og öll skiptir okkur máli sem þjóðfélagsþegna á hvaða forsendum þjónustan er skipulögð, til að þjóna almannahag eða sem arðsemisrekstur. BSRB hefur því látið til sín taka í þessari umræðu. Framlag samtakanna hefur ekki síst verið í því fólgið að veita þekkingu og reynslu erlendis frá hingað til lands. Færustu fræðimenn hafa verið fengnir til fyrirlestrahalds. Staksteinahöfundur Morgunblaðsis gerir tvo þessara fræðimanna að skotspæni sínum. Þessir fræðimenn eiga það sameiginlegt að gagnrýna einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar. Ekki treystir Staksteinahöfundur sér til að rökræða ...

10. September 2008

ÁFRAM VEGINN Í VAGNINUM EK ÉG...


Í umræðu um frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra um nýja Sjúkratrygginga- og innkaupastofnun, staðhæfa stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar að með því að færa heilbrigðiskerfið inn í viðskiptaumhverfi og nýta sér m.a. útboð á þjónustu muni heilbrigðisþjónustan eflast og verða fjölbreyttari... Reynslan sýnir að ekkert af þessu muni ganga eftir... Dæmin hræða. Árið 1996 var rafmagnseftirlitið...

10. September 2008

MORGUNBLAÐIÐ BREGST LESENDUM SÍNUM

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra bar sig aumlega í Morgunblaðinu í gær vegna myndar af sér og Gadaffi Líbíuleiðtoga sem birtist á þessari síðu, en Gadaffi er eins og kunnugt er sérlegur einkavinur Bandaríkjastjórnar sem ríkisstjórn Íslands er í bandalagi við í stríðinu í Írak. Hefur Guðlaugur Þór uppi stór orð um Gadaffi og þig, Ögmundur,  í viðtali við Morgunblaðið. Ekki ætla ég að tjá skoðanir mínar á ummælum hans en ...
Þjóðólfur

10. September 2008

ÖSSUR GEGN ÞÖGGUN

Ég hef fylgst með viðbrögðunum við myndbirtingunni af Gadaffi-handsali Guðalugs Þórs á blogginu og víðar. Aldrei hefði mig órað fyrir húmorsleysi ráðherrans og Sjallans upp til hópa. Auðvitað skýrist reiðin af því að menn skynja kaldhæðnina og taka hana til sín. Það er rétt sem þú segir Ögmundur, að hvorki Gaddafi né Guðlaugur Þór þurfa að færa djúp rök fyrir ákvörðunum sem þó eru af þeirri stærðargráðu að vitað er að þær koma til með að hafa miklar og afdrifaríkar afleiðingar. Gaddafi lofaði í vikunni sem leið að ...
Jóel A.

10. September 2008

EINKAVÆÐINGIN Á ALÞINGI Í DAG

Birtist í Fréttablaðinu 09.09.08.
FB logo...Ferðin var farin undir handarjaðri verktakafyrirtækisins sem skipuleggur markaðsvæðingarátak heilbrigðisráðherrans! Stjórnarandstaðan hefur hins vegar notað tímann og viðað að sér upplýsingum. Hverju skyldi sú rannsóknarvinna hafa skilað? Í ljós kemur að um þróunina í Svíþjóð er engin sátt. Markaðsvæðingin í heilbrigðiskerfi Svía sætir þvert á móti vaxandi gagnrýni...Einn helsti sérfræðingur Breta á þessu sviði, Allyson Pollock, prófessor við Edinborgarháskóla, sagði í erindi sem hún flutti hér á landi að umrætt frumvarp svipaði til löggjafar í Bretlandi frá þeim tíma sem  Bretar hófu vegferðina með heilbrigðiskerfi sitt inn á markaðstorgið undir leiðsögn Margrétar Thatchers...  

9. September 2008

AÐ VINNA Á HANDARBAKINU


Stundum er talað um handarbakavinnubrögð. Þá er átt við hroðvirknislegar  og klaufalegar aðfarir við vinnu... Vinnubrögð heilbrigðisráðherra varðandi frumvarp um nýja sjúkratrygginga- og innkaupastofnun á heilbrigðissviði er af þessu tagi. Ráðherrann hefur gerst sekur um flaustursleg og ómarkviss vinnubrögð og að því leyti er réttmætt að tala um ...

9. September 2008

MINNINGAR, RAUNSÆI OG HUGARÁSTAND Í ÍSLENSKRI SAMTÍMA-LJÓSMYNDUN

Ég rakst á eftirfarandi fréttatilkynningu frá Þjóðminjasafni Íslands sem væntanlega á erindi við þig Ögmundur, sem og heilbrigðisráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson. Skiptar skoðanir ykkar á ljósmyndum og myndbirtingum, sem Morgunblaðið greinir frá í dag, gætu einmitt falist í þeirri greiningu sem boðað er að fram komi í fyrirlestri Sigrúnar Sigurðardóttur menningarfræðings í Þjóðminjasafninu í dag. Ég hef fylgst nokkuð með heimasíðu þinni og er persónulega ekki frá því að þú sért enn...
ÞLÞ

9. September 2008

BUSH ÞJÓÐNÝTIR - JÓHANNA EINKAVÆÐIR


Í fréttum fáum við nú að heyra að Bandaríkjastjórn hafi ákveðið að taka með valdboði yfir drjúgan hluta af íbúðalánasjóðakerfinu í Bandaríkjunum. Stærstu lánastofnanirnar á íbúðamarkaði hafi verið fluttar undir ríkisforsjá. Þær fjármálastofnanir sem hér um ræðir væru búnar að sýna óráðsíu og stjórnendur þeirra svo slaka dómgreind að þær væru nú komnar í þrot. Nú ætti skattborgarinn ekki annarra kosta völ en að grípa í taumana og taka sjóðina...

8. September 2008

EINKAVÆÐINGARVÍTIN ERU TIL AÐ VARAST


Í fréttum Sjónvarpsins í kvöld var birt viðtal sem Bogi Ágústsson, fréttamógúll á RÚV,  tók við Allyson M. Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg. Jafnframt því að gegna stöðu prófessors, veitir Pollock forstöðu stofnun sem rannsakar skipulag heilbrigðisþjónustunnar (Centre for International Public Health Policy).
Í viðtalinu fjallaði Allyson M. Pollock um sams konar breytingar á heilbrigðisþjónustunni  og eru fólgnar í frumvarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um nýja Sjúkratrygginga- og innkaupastofnun. Það frumvarp er til þriðju umræðu á Alþingi á morgun.  Það var vel til fundið hjá fréttastofu Sjónvarps að ...

8. September 2008

FRUMVARP UM EINKAVÆÐINGU HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNAR

Birtist í Morgunblaðinu 07.09.08.
MBL  - LogoSenn hefst þriðja umræðan á Alþingi um frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráherra, um sjúkratrygginga- og innkaupastofnun í heilbrigðiskerfinu. Við aðra umræðu síðastliðið vor var ákafinn mikill að klára málið en á síðustu stundu féllst ríkisstjórnin á að fresta afgreiðslu til haustsins. Stóðu menn þá almennt í þeirri trú að unnið yrði að málinu í sumar. Það var ekki gert. Engin...

8. September 2008

Á SPARIFÖTUNUM Í HELGUVÍK...

...Er ekki merkilegt að viðskiptaráðherra skuli ekki vatni halda yfir orðum Jónasar Haralds um Evrópumálin í Silfri Egils í gær en nefna ekki einu orði hvað hann sagði um framtíð virkjana og stóriðjustefnunnar. Það væri fróðlegt að spyrja hann nánar út í þetta. Kanski hefur hann ekki heyrt þetta eða það sem líklegar er. Þetta hljómaði trúlega ekki vel fyrir þá sem stilltu sér upp í Helguvík forðum daga til að taka skóflustungu fyrir nýju álveri. Var hann ekki í spariförunum þar til að standa vörð um fagra Ísland...?
EJ

7. September 2008

TRÍPOLÍ-TENGINGIN


...Þarna talar maður sem ekki þarf að rökræða málin hvað þá grafast fyrir um líklegar afleiðingar gjörða sinna. Bandaríkjamenn og fjölþóðafyrirtæki ætla sér að græða á Gaddafi. Hverjir ætla sér að græða á einkavæðingu heilbrigðiskerfisins íslenska? Ekki svo að skilja að málflutningur Guðlaugs Þórs og Gaddafis sé sambærilegur. Það er hann ekki. Hitt eiga þeir sameiginlegt að þurfa ekki að færa djúp rök fyrir afstöðu sinni þegar ráðist er í grundvallarbreytingar á samfélaginu. Nærri báðum standa viðhlæjendur sem annað hvort nenna ekki að setja sig inn í málin eða telja að það kæmi þeim sjálfum í koll að setja fram stífa gagnrýni. Eða hvað haldið þið Samfylkingarráðherrar? Myndi það kosta ykkur...

7. September 2008

FRÁBÆR GUÐFRÍÐUR LILJA !

Ég var að horfa á Silfur Egils. Guðfríður Lilja var frábær! Til hamingju með að hún skuli vera í ykkar flokki. Ég var að sjálfsögðu þakklát henni fyrir stuðninginn við okkur ljósmæður, hún komst vel að orði og minnti á nauðsynina á því að taka á kjaramisréttinu í landinu, ekki bara kjörum ljósmæðra þótt það verkefni liggi fyrir að leysa NÚNA. Ekki síður þótti mér gott að heyra ...
Ljósmóðir

5. September 2008

HUGSUM STÓRT MEÐ ÞORLEIFI


Það fer ekki fram hjá neinum Reykvíkingi  sem að jafnaði  leggur leið sína um miðborgina að vandi útigöngumanna fer vaxandi.  Þeir ráfa um  í reiðileysi um borgina, illa á sig komnir enda margir langdruknir og húsnæðislausir. Athygli vakti viðtal við Þorleif Gunnlaugsson, borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík,  í Ísland í dag á Stöð 2 í fyrradag um málefni þessa fólks. Þorleifur kvaðst hafa setið í hálft annað ár í nefnd sem leita á lausna fyrir þetta fólk  og nú vildi hann sjá niðurstöður; að komist yrði frá orðagjálfri til athafna. Útgangsmenn væru upp til hópa fíklar og margir með geðræn ....

4. September 2008

ER RÚV GENGIÐ Í SAMFYLKINGUNA?

...Þetta var nefnilega tilefni til að spyrja Steinunni Valdísi hvort hún hefði sent Ingibjörgu Sólrúnu ályktunina og hvernig hún hefði tekið henni og í framhaldinu hefði mátt spyrja hvort þetta hefði verið rætt við borð ríkisstjórnarinnar, hvort um þetta væri ágreiningur, hvort Samfylkingin væri góði flokkurinn í þessari deilu en Sjálfstæðisflokkurinn vondi flokkurinn. Eða hvort þetta væri bara eintómur loddaraskapur í Samfylkingunni til þess eins að ganga í augun á ljósmæðrum án þess þó að fyrir því væri nokkur innistæða. Bara blekkingarvaðall eina ferðina enn? Sjónvarpið afgreiddi málið á eins ómálefnalegan hátt og hugsast getur en jafnframt ramm-pólitískan. Með framsetningunni var ...
Haffi

4. September 2008

HVATNING TIL AÐ LESA BÆKLING

Út er kominn hjá BSRB bæklingur með fyrirlestri sem Allyson M. Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi, flutti hjá BSRB í lok maí mánaðar. Jafnframt kennslu og fræðastörfum veitir höfundurinn forstöðu rannsóknarstofnun sem sérhæfir sig í skipulagi heilbrigðisþjónustunnar og afleiðingum hvers kyns breytinga sem á henni eru gerðar... Til Allyson M. Pollock er af þeim sökum mikið leitað af hálfu fjölmiðla, ekki aðeins í Bretlandi heldur víðs vegar um heiminn. Í heimsókn sinni til Íslands kynnti Allyson M. Pollock sér fyrirhugaðar breytingar á íslenska heilbrigðiskerfinu, og þá ekki síst frumvarpi Guðlaugs Þórs heilbrigðisráðherra um nýja Sjúkratrygginga- og innkaupastofnun í heilbrigðiskerfinu. Niðurstaða hennar var sú að verið væri að leggja upp í svipaðan leiðangur og Bretar lögðu upp í fyrir tæpum tuttugu árum samkvæmt frjálshyggju-forskrift Margrétar  Thatchers. Verkamannaflokkurinn undir forystu Blairs hafi tekið við keflinu...

3. September 2008

GJÖF ÞJÓÐARHREYFINGARINNAR


Einsog fram hefur komið í fréttum hefur þjóðarhreyfingin fær öllum þingmönnum að gjöf bókina Animal Farm, Dýrabæ, eftir George Orwell.  Þessi bók kom út árið 1945 og hafði þá þegar geysileg áhrif. Haft hefur verið á orði að þessi bók Orwells hafi jafnvel haft meiri áhrif en nokkur önnur bók sem út kom á 20. öldinni, Á bókarkápu útgáfunnar sem Þjóðarhreyfingin færði okkur þingmönnum segir að bókin eigi sannarlega erindi við 21. öldina einnig: „ Ekki síst er sagan holl lesning stjórnmálamönnum, þeim sem fara með vald í umboði annarra."
Tilefni gjafarinnar er að minna alþingismenn á að nú sé lag að ...

2. September 2008

ÞURFUM KRÖFTUGAR UMRÆÐUR UM ALMENNINGS-SAMGÖNGUR

Sæll Ögmundur.
Hvað finnst þér um væntanlegt útboð Sjálfstæðisflokksins á almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu? Mér finnst þessi vinnubrögð sem viðhöfð eru, vera fyrir neðan allar hellur enda virðist þessi sjálfstæði valdagræðgisflokkur bera enga virðingu fyrir þeirri sjálfsögðu þjónustu sem er þó eitt megin hlutverk sveitarfélaganna gagnvart íbúunum. Um þetta mál leyfði eg mér að blogga og var ekkert að skafa af hlutunum...
Guðjón Jensson

2. September 2008

Á AÐ SVÍKJA Í HÚSNÆÐISMÁLUM?

Birtist í Fréttablaðinu 01.09.08.
FB logoSamfylkingin undirbýr nú undanhald í húsnæðismálum. Svik myndi einhver kalla það eftir allar heitstrengingarnar um að ekki verði hróflað við Íbúðalánasjóði. Bankarnir hafa sem kunnugt er ofsótt sjóðinn, kært hann til Brussel og leitað allra leiða til að koma honum fyrir kattarnef. Krafan hefur verið sú að Íbúðalánasjóður megi vera til en aðeins til að sinna „félagslegum úrræðum". Að öðru leyti verði sjóðnum meinað að veita lán með baktryggingu ríkisins. Nú þegar það hefur sýnt sig hve mikilvægur Íbúðalánasjóður hefur reynst almennum íbúðakaupendum er óskiljanlegt að félagsmálaráðherra skuli ...

31. Ágúst 2008

Jón Torfason skrifar: MINNIMÁTTAR-KENND OG HROKI Í SKIPULAGI REYKJAVÍKUR

...Hér kemur m.a. til vanmat á gildi menningararfsins, þeirra verðmæta sem felast í gömlum húsum og götumyndum þar sem beinlínis má þreyfa á þróun bæjarins. Nær undantekningarlaust eru líka gömlu húsin hlýlegri ásýndar en flest það sem í staðinn hefur komið. Í húsverndarmálum er Stykkishólmur til algerrar fyrirmyndar en margt hefur verið vel gert á Seyðisfirði, Ísafirði, Sauðárkróki og víðar. Eyrarbakki hefur t.d. sloppið við flatnesku niðurrifs og uppbyggingar og bærinn fyrir innan ána á Blönduósi (á suðurbakka Blöndu) er forvitnilegur. Miklu víðar eru sveitarstjórnarmenn að vakna til vitundar um að sinna sínum gömlu menningarverðmætum meðan Reykvíkingar sitja eftir...

31. Ágúst 2008

BANKASUKKIÐ OG FJÁRGLÆFRAMÁLIN!

Eins mótsagnakennt og það kann að hljóma þá er allt annað ábyrgðarlaust en að láta bankana fara á hausinn ef til kemur. Fráleitt er að almenningur verði látinn blæða enn frekar þeim til hjálpar. Þannig standa þessi mál. Þjóðin hefur verið blóðmjólkuð af fjármálakerfinu og nú er jafnvel talað um að skattgreiðendur opni sjóði sína og verði í viðbragðsstöðu. Nei, frekar á að láta bankana fara á hausinn, hirða eigur þeirra í skaðabætur, jafnvel stinga inn sekum fjárglæframönnunum og stofna síðan banka í sameign almennings ...
Helgi

30. Ágúst 2008

UM HARÐSTJÓRN HUGMYNDAFRÆÐINNAR


...Og fólkið sem hneykslaðist hvað mest á skrifum á þessari síðu á sínum tíma um hvort við kynnum að vera betur komin með hugsunarhátt af þessu tagi utan landsteinanna en innan, segir nú vera fullkomlega skiljanlegt að auðkýfingarnir hugsi sér til hreyfings ef almenningur er ekki reiðubúinn að opna sjóði sína þeim til styrktar og lúti þeim í auðmýkt í stóru og smáu. Sá stjórnmálaflokkur sem stýrt hefur Íslandi inn á þessar glæfralegu brautir heitir Sjálfstæðisflokkur. Óumdeilanlegt er að hann stendur til hægri í stjórnmálum.  Þetta er flokkurinn sem gaf bankana, greiddi götu þotuliðsins og hlóð undir gullrassana. Þetta er líka flokkurinn sem lækkað hefur álögur á stóreignamenn og hlaðið gjöldum á sjúkt fólk og fátækt. Næst á dagskrá hjá flokknum er að eyðileggja Íbúðalánasjóð og ...

28. Ágúst 2008

HETJURNAR OKKAR Á ARNARHÓLI

Stórkostlegt var að fylgjast með mannfjöldanum á Arnarhóli í gær fagna ríkisstjórninni. Þarna voru þau ásamt forsetanum, Þórunn umhverfisráðherra, Guðlaugur heilbrigðisráðherra, Björgvin viðskiptaráðherra, Jóhanna félagsmálaráðherra, þorgerður menntamálaráðherra og kannski fleiri. Geir er náttúrlega í opinberri heimsókn í Albaníu og Ingibjörg eflaust að sinna vopnasendingum til Georgíu eða samtölum við forsetann í Turkmenistan um stuðning við okkur í Öryggisráðið. Auðvitað hafa þau skyldum að gegna og þurfa að sinna þeim. En þau komu sem gátu og mannfjöldinn ætlaði að ærast af fögnuði þegar þau ...
Sunnar Sara

28. Ágúst 2008

VILJA MAKKA UM EIGIN KJÖR

Birtist í DV 27.08.08.
DV...En hvers vegna í ósköpunum láta fjölmiðlamenn þau Geir og Ingibjörgu komast upp með þetta blekkingartal um samráð við stjórnarandstöðuna? Og varðandi aðferðafræðina spyr ég hvort fjölmiðlamönnum geti virkilega fundist eðlilegt að þingmenn og ráðherrar makki á bak við tjöldin um eigin sérréttinda-lífeyriskjör eins og formaður Samfylkingarinnar sagði Kastljósáhorfendum að unnið væri að?  Hvers vegna er ekki spurt út í þetta? Og einnig hitt, hvers vegna er komið í veg fyrir að greidd séu atkvæði um þær tvær leiðir sem deilt er um, sérréttindaleiðina fyrir þingmenn og ráðherra annars vegar og almenn kjör þeim til handa hins vegar?  Ekki svo að skilja að ekki verði séð til þess að  atkvæðagreiðsla um þessa tvo ...

26. Ágúst 2008

SOFANDAHÁTTUR, SKILNINGSLEYSI EÐA BLEKKINGAR?

Ég ætlaði vart að trúa eigin eyrum þegar ég hlustaði á Ingibjörgu Sólrúnu, utanríkisráðherra tjá sig um NATÓ fundinn í Búkarest frá í vor í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi. Þar sagði hún að eldflaugakerfi í Evrópu hefði nánast ekki borið á góma á fundinum! Var ráðherrann sofandi á fundinum eða vissi hún ekki hvað þar fór fram, kannski rugluð í ríminu eftir ...
Haffi

26. Ágúst 2008

UM VIÐBRÖGÐ ÞORLEIFS, SIGURÐAR OG JÓHANNS

...Þar bregðast á frábæran hátt, þrír einstaklingar við orðum og athöfnum Jórunnar Frímannsdóttur borgarfulltrúa og einkavæðingar- og útboðstilburðum hennar á sorphirðunni. Þessir þrír heiðursmenn sem þarna bregðast hárrétt við eru þeir: Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi, Sigurður Bessason formaður Eflingar og síðast en ekki síst Jóhann Bjarnason starfsmaður sorphirðu Reykjavíkurborgar, sem talar tæpitungulaust og miðlar af reynslu sinni og þekkinngu á starfseminni. Hafi þessar greinar farið framhjá ykkur lesendur góðir þá skora ég á ykkur að bæta þar úr.
Sjöfn Ingólfsdóttir

26. Ágúst 2008

ÞAGAÐ UM TÍBET


...Samkoman var allvel sótt en þó var fámennara en efni stóð til. Hvers vegna skyldi það hafa verið? Gæti það verið vegna þess að samkoman fékk nánast enga kynningu í almennum fjölmiðlum. Að undanskildum vefmiðli DV veit ég ekki til þess að nokkur fjölmiðill hafi birt fréttatilkynningu sem send var út um samkomuna! Ekki RÚV, ekki Morgunblaðið, ekki 24 stundir, ekki Fréttablaðið, ekki Bylgjan, ekki Stöð 2....að því er ég best veit. Sú var tíðin að fjölmiðlar voru ófeimnir að fjalla um mannréttindabrot innan Kínverska Alþýðulýðveldisins. Hvað hefur breyst?  Það sem breyst hefur er þetta...

24. Ágúst 2008

Á ÞAKI HEIMSINS

Ræða á fundi sem Vinir Tíbets stóðu fyrir í Salnum í Kópavogi  24.08.08.

Fyrst man ég eftir fréttum frá Tíbet árið 1959. Þá var ég 11 ára. Einu ári eldri en Kínverska Alþýðulýðveldið. Tíbetar höfðu gert uppreisn gegn  valdhöfunum í  Peking, sem innlimað höfðu land þeirra.  Mér eru minnisstæðar spennuþrungnar fréttir af flótta trúarleiðtogans Dalai Lama úr landi og ofbeldisfullum aðgerðum gegn þeim sem risið höfðu upp.  Enda þótt uppreisnin hafi verið bæld niður bárust fréttir af og til á næstu árum til Vesturlanda af andófi og harkalegum aðgerðum hers og lögreglu. Málsvarar hins unga Kínverska Alþýðulýðveldis sögðu okkur að hafa allan vara á og ekki trúa sem nýju neti ...

24. Ágúst 2008

Í KVÖLD ER ÞAÐ SALURINN Í KÓPAVOGI


...Ekki veit ég hve margir vissu um þessa athöfn en fjölmiðlar hafa haft öðrum hnöppum að hneppa þegar Kína er annars vegar en að fjalla um mannréttindi í Tíbet og annars staðar í hinu víðfeðma kínverska ríki. Mér er deyfð fjölmiðla umhugsunarefni.  Hópurinn sem stóð fyrir kertaathöfninni við kínverska sendiráðið í gærkvöldi er sami hópur og stendur fyrir tónleikum í Salnum í Kópavogi klukkan 20 í kvöld.  Þessi hópur hefur ekki fjármuni til að auglýsa atburðinn.  Fari fram sem horfir munu fjölmiðlar ekki vekja á honum athygli. Ég hvet þá sem lesa þessar línur að láta sem flesta vita um styrktartónleikana í kvöld.  Með því að mæta má slá tvær flugur í einu höggi...

23. Ágúst 2008

INNBLÁSTUR ÞJÓÐINNI Í HEILD


...Það er merkilegt að verða vitni að því þegar jákvæður og uppbyggilegur félagsandi skilar árangri og ánægju. Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, hefur lengi talað fyrir þessum viðhorfum. Hann hefur talað liðsandann í sitt lið sem svo aftur skilar sér til okkar allra. Það hreif mig þegar Guðjón Valur sagði okkur hve illa sér hefði liðið þegar honum tókst ekki að nýta hraðaupphlaupin sem skyldi en að félagarnir hefðu hjálpað sér úr lægðinni og hann eftir það náð sér á strik. Hugleiðum orð þeirra Thors, Guðfríðar Lilju og Guðjóns Vals og drögum af þeim lærdóma. Ef við...

23. Ágúst 2008

UM JARÐSAMBAND FORSETA, HELBLÁTT ÍHALD OG MANNRÉTTINDI Í KÍNA

Nú vil ég vita frá þér Ögmundur sem oft hefur gagnrýnt forseta vorn hr. Ólaf Ragnar nokkuð fast hvað þú segir um hans dygga stuðning við landsliðið okkar. Er það ekki einmitt svona sem okkar landsfeður eiga að vera? Vera með sínu fólki og það er nú eitthvað annað en ólánskrákan hún Þorgerður Katrín sem fór akkúrat heim þegar Ólafur kom út. Þau geta kannski ekki einu sinni verið á sama tíma í Kína þó þar búi ellefu hundruð milljónir eða meira. Það er nú meira inngróna hatrið sem þetta íhaldslið hefur á forsetanum. Hann er auðvitað ekki ...
Jón frá Læk

22. Ágúst 2008

ENGA MÁLAMIÐLUN UM RÁÐHERRÓSÓMA!

Ég vil þakka þér fyrir Ögmundur að ljá ekki máls NEINNI málamiðlun um eftilaunaósamann. Auðvitað eiga þingmenn og ráðherrar og „æðstu" embættismenn að vera í NÁKVÆMLEGA sama lífeyriskerfi og aðrir þeir sem fá laun sín frá ríkinu. ...Það verður gaman að fylgjast með nafnakallinu á þinginu þegar breytingartillga þín um að setja alla í LSR verður borin undir atkvæði...
Grímur

22. Ágúst 2008

UM SAMKOMU Í SALNUM OG ÁKALL SEM FÆST EKKI BIRT


Á sunnudagskvöld klukkan 20 verður samkoma í Salnum í Kópavegi til stuðnings flóttamönnum frá Tíbet. Fjöldi listamanna kemur þar fram og er ástæða til að hvetja fólk til að fjölmenna á þessa styrktartónleika. Í grein sem hin ötula baráttukona fyrir mannréttindum í Tíbet, Birgitta Jónsdóttir birtir hér á síðunni í dag  undir frjálsum pennum, gagnrýnir hún íslenska fjölmiðla fyrir hve slælega þeir hafi staðioð sig í „að fklytja fréttir á gagnrýnin hátt um voðaverkin sem framin eru í skugga Olympíuleikanna." Hún birtir einnig í viðhengi Ákall um frið í Tíbet eftir  Tsewang Namgyal sem búsettur er hér á landi. Það sem vekur mér ugg er að þessi grein hafi verið send til allra fjölmiðla en ekki fengist birt!...

22. Ágúst 2008

Birgitta Jónsdóttir skrifar: ERU ÓLYMPÍULEIKAR PÓLITÍSKUR VETTVANGUR?

Ég hef fylgst náið með ástandi mála í Tíbet og í Kína á meðan á Ólympíuleikarnir hafa staðið yfir. Ég hef reynt að setja mig í spor ráðamanna okkar og þeirra sem halda því fram að það sé rangt að blanda saman íþróttum og pólitík. Þar hafa farið fremst í flokki menntamálaráðherra Íslands, Þorgerður Katrín og íslenska Ólympíunefndin.
En hafa kínversk yfirvöld sjálf virt þessar siðareglur Alþjóða Ólympíusambandsins?
Það þarf ekki að kafa djúpt ofan í fréttir sem tengjast Ólympíuleikunum til að sjá að svo er ekki.
Þegar kyndill fór í gegnum Lhasa í Tíbet...
Læt hér fylgja með bréf sem Tsewang Namgyal sendi á alla fjölmiðla landsins en fékk hvergi birt...

22. Ágúst 2008

KVEIKT Á KERTI FYRIR TÍBET

Nú lýkur senn Olympíuleikunum að þessu sinni. Baráttufólk fyrir mannréttindum hefur ötulega unnið að því að vekja athygli á mannréttindabrotum sem framin eru innan landamæra Kína og hefur sjónum ekki síst verið beint að Tíbet. Í fréttatilkynningu frá Vinum Tíbets er vakin athygli á því að annað kvöld, laugardagskvöldið 23. ágúst klukkan 21:00 verður efnt til aðgerða víðs vegar um heiminn „til að sýna fram á að heimsbyggðin hefur ekki gleymt Tíbet, þó kínversk yfirvöld hafi gert sitt besta til að hindra aðgang að upplýsingum um ástand mála þar. Kveikt verður á kertum fyrir utan kínversk sendiráð um allan heim, en ...

21. Ágúst 2008

EKKI SKAMMA LITLA GÆJANN SEM BARA LANGAR Í TYGGJÓ

Sannast sagna hefði ég ekki trúað því upp á þig Ögmundur að ráðast á Framsóknarflokkinn á eins óvæginn hátt  og þú gerir í dag. Þú hefur greinilega leitað uppi á netinu myndir af þeim framsóknarmönnunum, félögunum Óskari og Guðlaugi  að gera sér glaðan dag eftir kosningar, skála fyrir því sem þú kallar aðgangsmiða að kjötkötlum Reykjavíkurborgar. Þetta gerir þú greinilega til að spotta þá félaga. Ég er hins vegar sannfærð um að aldrei hefur það hvarflað að Framsókn að...
Sunna Sara

21. Ágúst 2008

UPPSKERAN Í HÚS HJÁ LITLU, LITLU FRAMSÓKN


...Eftir kosningarnar 2006 efndu Framsóknarmenn til uppskeruhátíðar. Þeir fögnuðu að vísu fáum atkvæðum í Reykjavík, en mögulegum aðgöngumiða að kjötkötlum borgarinnar. Á uppskeruhátíð Framsóknar sem haldin var hjá Siv Friðleifsdóttur, þingmanni flokksins, voru þeir gleiðbrosandi, Óskar framsóknarmaður og Guðlaugur framsóknarmaður. Nú er uppskeran, sem Siv segir frá á heimasíðu sinni, komin í hús. Óskar framsóknarmaður orðinn formaður í aðskiljanlegum nefndum og Guðlaugur framsóknarmaður stjórnarformaður í OR.
Eflaust er Framsóknarflokkurinn ánægður. Það er svo hitt að spyrja yfir hverju ...

18. Ágúst 2008

ER RÚV AÐ HJÁLPA INGIBJÖRGU OG GEIR AÐ VIÐHALDA EFTIRLAUNA-SÉRRÉTTINDUM SÍNUM?


...Ömurlegt er að fylgjast með tilraunum ráðherranna tveggja að ná samkomulagi um lágmarksbreytingar á lífeyrislögunum með það fyrir augum að viðhalda sérréttindum sínum. Ég frábið að fjölmiðlar hjálpi þeim í þessu ætlunarverki. Ekki gleyma því að lífeyrislögin alræmdu eru sérstaklega sniðin að hagsmunum ráðherra sem fá 6% af  launum sínum fyrir hvert ár í embætti  sem ráðherra. Þingmenn fá 3%. Í LSR er rétturinn innan við 2% og í mörgum lífeyrissjóðum minna en 1,5%!  Fullkomin sátt? Við hvern? Þingið? Þjóðina?...

17. Ágúst 2008

UM „DÁLITLA INNEIGN"


...Þáverandi ríkisstjórn lét sem kunnugt er það viðgangast að við vorum sett á lista svokallaðra „viljugra þjóða" en þar var að finna samsafn vesælustu peða Bandaríkjanna á taflborði heimsstjórnmálanna á þeim tíma, þjóðir sem bjuggu við stjórnvöld sem hugsuðu meira um meinta eigin hagsmuni en prinsipp og samvisku.
Tilefni þess að ég rifja þetta upp nú eru orð núverandi utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, í Morgunblaðinu 13. ágúst. Hún veltir þar vöngum yfir því hvað valdið hafi því að ríkisstjórn Íslands studdi ódæðið gegn Írak. Þar kunni að hafa skipt máli að brotthvarf bandaríska hersins frá Íslandi var þá til ...

17. Ágúst 2008

VILJA ÍBÚAR Á STÓR REYKJAVÍKUR-SVÆÐINU EFLA ALMENNINGS-SAMGÖNGUR?

Það kemur fyrir öðru hvoru að stjórnmálamenn tala um að efla þurfi almenningssamgöngur og undir það tekur oft hinn almenni íbúi.  En hversu mikil meining er á bak við þau orð.  Ég upplifi þessi orð stjórnmálamanna: Eflum almenningssamgöngur eins og þau séu notuð á þeim stundum sem þeir telji að þau skili sér atkvæðum.  Árið 2001 stofnuðu sjö bæjarfélög á Reykjavíkursvæðinu ...
Sigurbjörn Halldórsson 

13. Ágúst 2008

ER EINKAVÆÐING LAUSN Á FJÁRHAGSVANDA STRÆTÓ BS?

... Ef borgar- og bæjarfulltrúum finnst laun upp á 150 til 197 þúsund á mánuði vera að gera út af við fyrirtækið eiga þeir bara að segja það umbúðalaust og muna það svo með okkur þegar gengið verður til kosninga næst.
Höfundur situr í fulltúaráði St.Rv.

13. Ágúst 2008

FAGRA ÍSLAND Í 1.461 DAG

Birtist í Fréttablaðinu 12.08.08
FB logoÉg hef skrifað greinar í þetta blað undir fyrirsögninni Fagra Ísland, samhljóða stefnuyfirlýsingu Samfylkingarinnar í umhverfismálum. Samfylkingin hét stóriðjustoppi kæmist hún til valda, nú skyldi gefið upp á nýtt, einsog formaðurinn orðaði það í aðdraganda síðustu alþingiskosninga: „Með þessari stefnumótun um hið fagra Ísland hefur Samfylkingin tekið þá skýru stefnu að sú stóriðjustefna sem ríkisstjórnin hefur fylgt á umliðnum árum og boðar á komandi kjörtímabili eigi ekkert erindi við framtíðina. Hún á ekkert erindi við framtíðina, nú er tímabært að stokka upp spilin, gefa upp á nýtt og gefa náttúrunni betri spil á hendi en hún hefur haft...

12. Ágúst 2008

LÝÐSKRUMARI EÐA LÝÐNÍÐINGUR?

Ég hef lesið orðahnippingar hér á síðunni á milli þín annars vegar og útvarpsstjóra RÚV ehf og forsvarsmannas Sambands ungra sjálfstæðismanna hins vegar. Þeir tala um lýðskrum af þinni hálfu þegar þú gagnrýnir þá sem nýta sér aðstöðu sína til að afla sjálfum sér himinhárra tekna. Þá telja þeir fráleitt að upplýsa um ósómann!
Ef það er lýðskrum að benda á hið geigvænlega misrétti og óréttlæti sem hefur þróast í landi voru undanfarin 20 ár, sem þorri þjóðarinnar heimtar leiðréttingu á, þá tel ég mikinn heiður af því að vera kallaður lýðskrumari! Gæti verið að meintur „lýðskrumari" sé að fletta ofan af ...
Úlfur

11. Ágúst 2008

FORSENDUR ÞJÓÐARSÁTTAR - HVAÐ ÞARF TIL?


Oft tala menn um þjóðarsátt eins og hún verði tekin upp úr hatti bara ef þrír eða fjórir svokallaðir lykilmenn komi sér saman um það. Þetta er fjarri lagi. Til að þjóðarsátt verði annað en orðin tóm þarf þjóð að standa sáttinni að baki.  Á Íslandi verður engin þjóðarsátt ef haldið verður áfram að hygla stóreignafólkinu, gera aðför að Íbúðalánasjóði, einkavæða heilbrigðisþjónustuna, svíkja gefin fyrirheit gagnvart öldruðum og öryrkjum, henda peningum í hernaðarbrölt og gæluverkefni, skerða kjörin innan löggæslunnar og segja þar upp fólki - og þannig mætti áfram telja. Þjóðarsátt má hins vegar ná að mínu mati ef snúið verður af þessari braut á þeim forsendum sem nefndar eru hér...

11. Ágúst 2008

HVAR Á AÐ TALA VIÐ FORSETANN?

...Ólína finnur að því að sjónvarpsviðtal við forseta Íslands skyldi fara fram í Alþingishúsinu. En í þvi húsi var embættistaka hans 1. ágúst samkvæmt venju og viðtalið tekið í beinu framhaldi af því. Hvar átti fremur að taka það? Eða á innsetningarathöfnin að fara fram annars staðar? Svo virðist sem eitthvað í framgöngu forseta hafi angrað Ólínu, nú eða áður. Væri ekki betra að hún segði það hreinskilnislega í stað þess að finna sér svona furðulegt yfirvarp?
Gunnar Stefánsson

10. Ágúst 2008

EFTIRLAUNALÖGIN OG AFSTAÐA EINSTAKRA ÞINGMANNA


...Í mínum huga er málið mjög skýrt. Fyrir þinginu liggur frumvarp frá Valgerði Bjarnadóttur um afnám eftirlaunalaganna. Í frumvarpi hennar er kveðið á um að lífeyriskjör ráðherra, þingmanna og ýmissa embættismanna verði samræmd  almennum lífeyrisréttindum starfsmanna ríkisins. Málið er fullfrágengið. Málið er tilbúið til afgreiðslu. Málið er í höndum þingsins...

10. Ágúst 2008

ER BOÐLEGT AÐ SKATTGREIÐENDUR REKI EINKABÍLA FYRIR FORSTJÓRA?


Það er ekki út í loftið að ég segi að nú sé mál málanna að jafna kjörin í landinu. Á undanförnum árum hefur stefnt hraðbyri í misréttisátt á Íslandi. Það sem verra er að þeir sem verið hafa í aðstöðu til að skara eld að eigin köku hafa komist upp með það nánast óáreittir. Það er ekki fyrr en í seinni tíð að gagnrýnin á sjálftökuliðið gerist hávær. Ekki að furða að fólki blöskri þegar marg-milljón-krónu-mennirnir byrja að segja starfsfólki sem undir þá er sett, úpp starfi; vísa því út á guð og gaddinn... Ég vakti máls á mikilvægi kjarajöfnunar hér á síðunni þegar nokkrum starfmönnum RÚV ehf var sagt upp störfum nýlega. Ég lagði til að glæsibíllinn yrði seldur undan útvarpsstjóranum, Páli Magnússyni áður en byrjað væri að segja upp fólki. Í mínum huga er þetta spurning um peninga og fordæmi, fjárhagsleg og táknræn aðgerð. DV gerði úr þessu smáfrétt. Í framhaldinu var leitað  til útvarpsstjóra. Hann brást hinn versti við og sagði að í sínum huga væri  þessi málflutningur minn „svo mikið lýðskrum og sýndarmennska" ...

8. Ágúst 2008

ENGIN PÓLITÍK Í BÖNKUNUM?

Mér finnst undarlegt hjá Illuga Gunnarsyni að segja ef bankar væru í ríkiseigu þá hafi það verið undir stjórnmálamönnum komið hvort veitt yrði lán. Veist þú til þess að lán til viðskiptavina ríkisbanka hafi verið komið undir stjórnmálamönnum...? 
Jón Þórarinsson

8. Ágúst 2008

YFIRLÝSING UTANRÍKISRÁÐHERRA UM RÉTTLÆTI Í HEIMSVIÐSKIPTUM

Birtist í Morgunblaðinu 07.08.08.
MBL  - Logo...Hvað eru varaformaður og formaður Samfylkingarinnar eiginlega að fara? Þau hræra saman áralangri deilu um skipulag á landbúnaðarframleiðslu á Íslandi og baráttu fátækra landa fyrir að koma útflutningsvörum sínum á heimsmarkað án skilyrða. Látið er líta svo út sem íslenski bóndinn sé helsti dragbítur á tilraunir þriðja heimsins til að hefja sig upp úr fátækt. Hvers kyns stuðningur við landbúnað er eitur í beinum þessara talsmanna Samfylkingarinnar og „áríðandi mannúðarmál" að knýja þar fram breytingar svo „opin heimsviðskipti" geti farið fram. Eftir því sem ég skil málið hefur sú deila innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem snýr að landbúnaði staðið um ...

7. Ágúst 2008

UM HAFLIÐA OG HIMINTUNGLIN OG UM SPARISJÓÐ MÝRASÝSLU


...Þar höfum við það. Samkvæmt þessu eru Landsbankinn, Glitnir og Kaupþing komnir í hlutverk Rauða Krossins eða Hjálapræðishersins. þeir veiti hinum sárþjáðu líkn. Ég held að þetta sé nú ekki alveg svona. Og innst inni held ég að Hafliði Helgason viti að fullyrðingar hans um styrk „stóru bankanna" sem veiti hinum dauðvona „náðarhögg" standast ekki...Í pistli hér á síðunni hef ég áður vísað í vangaveltur Jóns Bjarnasonar, þingmanns VG, um hræringarnar sparisjóði Mýrasýslu og hvernig þær tengjast öðrum sparisjóðum: „Ljóst hefur verið í nokkurn tíma að fámennur hópur fjármálamanna var að bora sér leið bakdyramegin inn í Sparisjóð Mýrasýslu til að komast yfir eigur hans fyrir lítið. Nýjustu fregnir herma að Kaupþing sé að eignast 70% hlut í Sparisjóði Mýrasýslu,  einum stærsta  sparisjóði landsbyggðarinnar á aðeins 1750 milljónir  króna...

6. Ágúst 2008

GOTT HJÁ ÞÓRUNNI, EN...

Birtist í Fréttablaðinu 05.08.08.
FB logo...Samráðherrar Þórunnar, bæði úr Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu, lýsa því yfir að álver verði byggt á  Bakka hvað sem tautar og raular. Bera í besta lagi í bætifláka fyrir umhverfisráðherra með því að segja að Þórunn sé að sinna nauðsynlegum  formsatriðum. Gagnrýnin á umhverfisráðherra þykir mér ekki byggja á haldbærum rökum.
En hvers vegna efasemdarfyrirvarinn sem ýjað er að í fyrirsögn þessa greinarkorns?
Á umhverfisráðherranum sjálfum er nefnilega svo að skilja að heildstætt umhverfismat muni ekki breyta neinu, að í huga hennar sjálfrar sé...

5. Ágúst 2008

FORSETINN OG VALDÞÆTTIRNIR

...Hefði mönnum þótt eðlilegt að sjá viðtal við forseta lýðveldisins tekið á skrifstofu Geirs H. Haarde? Eða á skrifstofu forseta Hæstaréttar? Sjónvarpið þarf að þekkja valdþætti samfélagsins og Alþingi þarf að vera vant að virðingu sinni ella glatar það trausti okkar. Ég dreg í efa að forseta hafi þótt verra að láta tala við sig á vettvangi
löggjafarþingsins, með gullkeðju á brjósti, en aðrir eiga ekki að dansa með.
Ólína

5. Ágúst 2008

ENN UM SKATTSKRÁR

....Sú aðgerð að birta opinberlega skattgreiðslur allra Íslendinga getur aðeins haft tvær mögulegar og málefnalegar réttlætingar, og þeim er ég báðum ósammála...Af málflutningi þínum að dæma hefur þú hvorugt þessara markmiða í huga. Þú telur að með þessari birtingu sé skömm ofurlaunamannanna opinberuð. Þú gengur meira að segja svo langt að kalla þessa menn þjófa. Það finnst mér reyndar ekki sæma þér. Því er þó til að svara að laun þessara manna birtast hvort sem er í ársreikningum þeirra fyrirtækja sem þeir starfa fyrir...
Þórlindur

4. Ágúst 2008

ÞAÐ Á EKKI AÐ ÞEGJA ÓÞÆGILEGAR STAÐREYNDIR Í HEL

...Ég verð að fá að leggja orð í belg vegna ámátlegs væls í  SUS börnunum.  Ég hefði haldið að okkar unga glæsilega fólk hefði betri skilning á hvað réttlæti, sanngirni og heiðarleiki er, ekki síst þar sem margir Sjálfstæðismenn með sómatilfinningu, mæla með sem opnustu, sanngjörnu og réttlátu þjóðfélagi,,, þó þeim fari ört fækkandi. Þegar Þórlindur, formaður SUS, segir að upplýsingar um skattgreiðslu einstaklinga í sameiginlegan skattgreiðendasjóð ríkisins, sé einkamál skattgreiðendanna...
Úlfur

4. Ágúst 2008

BANKAR OG SPARISJÓÐIR: ÁBENDINGAR OG VARNAÐARORÐ

Miklar hræringar eru í fjármálalífi þjóðarinnar. Í mjög svo umhugsunarverðu bréfi sem Ólína birti hér á heimasíðunni fyrir skemmstu undir fyrirsögn þar sem spurt er hvort engin viðurlög séu við því að eyðileggja efnahagskerfi þjóðar, rekur hún afleiðingar þess að fjármálakerfið var einkavætt og þar komust til valda  „menn sem höfðu takmarkaða þekkingu á alþjóðlegum bankaviðskiptum" ...Þeir halda áfram að reyna ná eignarhaldi yfir því sem eftir er í fjármálakerfinu og er enn utan yfirráða þeirra. Jón Bjarnason , alþingismaður, hefur verið ötull talsmaður þess að varðveita sparisjóðina sem samfélagslega ábyrgar stofnanir róttengdar því samfélagi sem þeir eru sprottnir upp úr. Í pistli sem Jón birti á bloggsíðu sinni fyrir fáeinum dögum segir m.a. ...

4. Ágúst 2008

FORMAÐUR SUS UM SKATTSKRÁRNAR

Þetta er nú meiri þvælan í þér Ögmundur. Það er ekki verið að vernda hagsmuni neinna umfram aðra. Það eru mörg dæmi þess að fólk hafi orðið fyrir óþægindum vegna þessarar birtingar og gildir það sannarlega ekki bara um hátekjufólk. Þetta er spurning um friðhelgi einkalífs. Hvort sem þér líkar betur eða verr, og hvort sem þú ert sammála eða ósammála, þá finnst mér þú ættir ekki að ætla fólki annað en að það fylgi sinni samvisku. Þetta mál snýst um vernd borgaralegra réttinda einstaklingsins og er því hugsjónamál. Þessir útúrsnúningar hjá þér eru illkvitnir, ómálefnalegir og hallærislegir. Þar fyrir utan höfum við ekki ...
Þórlindur, formaður SUS

2. Ágúst 2008

VERNDARAR LÍTILMAGNANS


...Og er ég þá ekki einu sinni byrjaður að tala um þá sem hafa dundað sér við að stela Íslandi á undanförnum árum, m.a. nýtt sér pólitísk tengsl  í því skyni, samböndin við einkavinina á þingi og í sveitarstjórnum sem hafa einkavætt almannaeignir og fært þeim þær á silfruðu fati. Þessu fólki finnst óþægilegt að skattskrárnar skuli opnar fjölmiðlum og þar með almenningi. En á hvítum hestum hafa bjargvættirnir birst, ungir Sjálfstæðismenn í  SUS. Þeir eiga sér þá hugsjón að vernda hinn smáa. Undir það skal ég taka að þarna hefur SUS fundið smátt fólk. En þó finnst mér að...

1. Ágúst 2008

Einar Ólafsson skrifar:EINKA-VÆÐING, EINKAREKSTUR EÐA HVAÐ?

...En í sögulegu og pólitísku samhengi er eðlilegt að nota nú hugtakið einkavæðing þegar rætt er um breytt rekstrarform í heilbrigðiskerfinu. Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins hafa unnið markvisst að einkavæðingu og þeirri vinnu lauk alls ekki með myndun núverandi ríkisstjórnar. Það er ljóst að stefnt er að því að færa sem mest í einhverskonar einkarekstur sem einkaaðilar geta á annað borð hagnast eitthvað á. Byrjað var á einfaldri einkavæðingu með sölu bankanna, símans og annarra ríkisfyrirtækja en síðan er leitað inn á svið skólakerfisins og heilbrigðiskerfisins og annarrar ... 

1. Ágúst 2008

ENGINN VEIT HVAÐ ÁTT HEFUR...

Birtist í 24 stundum 31.08.08.
24 stundir...Síðast tel ég svo upp það sem mestu máli skiptir. Að umbreyta orku í ál er ekki gert okkur að kostnaðarlausu. Fórnin er ekki smá. Fórnað er náttúruperlum Íslands. Sigríður frá Brattholti bjargaði Gullfossi á sínum tíma; kvaðst fremur fórna lífi sínu en láta eyðileggja Gullfoss.  Ekki vil ég mannfórnir. En það er engu að síður okkar kynslóðar að bjarga Þjórsá og Jökulánum í Skagafirði frá skammsýnum og virkjunaróðum stjórnvöldum. Herhvöt Sigurjóns bankastjóra og félaga nú síðast gengur út á að ...

31. Júlí 2008

HROKAFULLT PRÓFGRÁÐUMANNATAL


...Talsmenn hálaunalækna segja niðurstöðu úr atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning fela í sér skýr skilaboð: Meirihluti lækna vilji að menntun þeirra sé metin að verðleikum. Svipaðir tónar hafa heyrst frá ýmsum hópum háskólamenntaðara að undanförnu. Þeir tala með fyrirlitningu um tilraunir til að jafna kjörin. Slíkt tal hljómar ekki  sérlega vitiborið í mínum eyrum. Læt ég þá réttlætið liggja á milli hluta. Langskólamenntað fólk verður að skilja að menntun er ekki og á ekki að vera óskilyrt ávísun á miklu betri kjör en þeir njóta sem búa yfir minni skólamenntun...

31. Júlí 2008

NÝ SÝN Á FJÖLMIÐLA-FRUMVARPIÐ?

... fínn pistill hjá þér um fjölmiðla og einkavæðingu, en varðandi fjölmiðlafrumvarpið langar mig að spyrja þig nánar út í afstöðu sína til þess á sínum tíma og í dag? Hefur afstaða þín breyst? Mig minnti að þú hefðir barist ötullega gegn því á sínum tíma en sýnist á þessum pistli að þú hugsir hlýjar hugsanir í garð þess...
Viktor

31. Júlí 2008

GUÐLAUGUR ÞÓR TALAR, SAMFYLKING ÞEGIR

Birtist í 24 stundum 30.07.08.
24 stundir...Það sem veldur mestum heilabrotum hvað þetta allt varðar,  er þögn Samfylkingarinnar. Hún þegir á meðan Guðlaugur Þór framkvæmir. Hann framkvæmir í anda Thatchers og síðar Blairs. Þessir bresku stjórnmálamenn komust vel áleiðis að eyðileggja bresku heilbrigðisþjónustuna. Alltaf sögðust þau vera að gera minni háttar breytingar. Tæknilegs eðlis. Þau bjuggu til hina pólitísku friðþægingarformúlu sem  Guðlaugur Þór fylgir. „Bara smávægilegar tæknilegar breytingar í hagræðingarskyni." En svo gerist það einn daginn að menn vakna sem af vondum draumi við það að kerfið hefur verið eyðilagt...

31. Júlí 2008

STJÓRNMÁL OG FJÖLMIÐLAR

.Birtist í DV 30.07.08.
DV...Samhljómur er að aukast að nýju með Morgunblaðinu  og frjálshyggjudeild Sjálfstæðisflokksins. Eflaust eru hinir harðpólitísku tónar nýjum eigendum Mogga að skapi. Hvað með 24 stundir sem er í eigu sömu aðila og Morgunblaðið? Hve lengi skyldu blaðamenn þar fá að starfa óáreittir? Hvað með Fréttablaðið og DV? Andar Baugur þar ofan í hálsmálið á ritstjórninni? Og Viðskiptablaðið - skyldi ritstjórnin verða vör við eigendur sína frá Bakkavör?...

28. Júlí 2008

STRÆTÓ EINKAVÆDDUR BAKDYRAMEGIN?

Birtist í Morgunblaðinu 27.07.08
MBL  - LogoÉg hef löngum verið þerrar skoðunar að veigamikil ástæða fyrir því að Sjálfstæðismenn töpuðu meirihluta sínum í Reykjavík árið 1994 hafi verið ákvörðun um að einkavæða Strætisvagna Reykjavíkur. Almenningur lét kröftuglega frá sér heyra og starfsmenn Strætisvagnanna stóðu sem klettur. Þar var margan flokksbundinn Sjálfstæðismanninn að finna sem létu pólitíska samherja sína heyra að þeir gerðu sér grein fyrir því að þessi ráðstöfun var fyrst og fremst til þess að rýra kjör þeirra ...

24. Júlí 2008

GOTT HJÁ SPEGLINUM

...Illugi virtist mér vera velmeinandi maður en getur verið að hann átti sig ekki á því hvernig verið er að eyðileggja heilbrigðiskerfið, samanber síðustu skrif þín hér á síðunni um svívirðiðlega framkomu gagnvart fötluðum? Settu endilega slóðirnar á viðtölin við ykkur Illuga.
Grímur

24. Júlí 2008

BRÉF ÓLÍNU OG EINAR ÞVERÆINGUR

Hún er markviss greinin þín undir fyrirsögninni " http://rikiskaup.is/utbod/14559 "  og í tíma rituð. Hún lýsir mannkærleika auðvaldsins vel! Ólína skrifar frábæran pistil á vefsíðunni þinni að vanda undir yfirskriftinni "ERU ENGIN VIÐURLÖG VIÐ ÞVÍ AÐ EYÐILEGGJA EFNAHAGSKERFI ÞJÓÐAR?" Þar ritar hún meðal annars... Ég leyfi mér að segja hér frá sönnu dæmi sem gerðist að vísu nokkru síðar en á 17. öldinni - sennilega um 1890 - á Akranesi, í sjálfum Borgarfirðinum sem eru...
Úlfur   

24. Júlí 2008

http://rikiskaup.is/utbod/14559


Farið endilega inn á slóðina í þessari fyrirsögn. Þarna kemur í ljós að Heilbrigðisráðuneytið hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar,  falið Ríkiskaupum að bjóða út umönnun 12 mikið fatlaðra einstaklinga.  Mér er kunnugt um að þeir voru ekki spurðir álits. Bara boðnir út. Númer 14559 hjá Ríkiskaupum.  Mannfyrirlitning?  Það þykir mér.  Og það þykir viðkomandi einstaklingum líka. Það er mér kunnugt um.  Á síðu Ríkiskaupa segir hverjar þarfir viðkomandi fólks eru. Einnig þær þarfir sem snúa að persónulegustu högum. Allt sett á netið.  Búið að bókhaldsvæða manneskjurnar að forskrift einkavæðingarráðherra heilbrigðismála.  Þetta er að sjálfsögðu ...

22. Júlí 2008

Gunnar Gunnarsson skrifar: TIL HVERS VAR BARIST?

Það sem rekur mig til að skrifa þér er nýgerður kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem að mínu mati er víti til varnaðar...Samningsréttinn eins og hann er þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar það er óverjandi og nánast óviðunandi að hann sé óbreyttur. Það er ekkert sem réttlætir að einstök félög hafi umboð til að fást við þá hluta samninga sem varða heildina og grafa með gjörðum sínum undan samningum annarra. Það er mín skoðun og hefur verið lengi að umboðið til að semja  um einstaka þætti kjarasamninga eigi að vera á hendi heildarsamtaka en ekki einstakra félaga....

19. Júlí 2008

UM EINSLEITNI Í FJÖLMIÐLUM

Ég ætla svosem ekki að stofna til rökræðna um eigendavaldið, skoðanafrelsið, einsleitnina og það allt saman en bendi á - til gamans - að miðvikudaginn 2. júlí fékk einn og sami maðurinn birtar eftir sig greinar í fjórum íslensum dagblöðum, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, DV og 24 stundum. Sá heitir Ögmundur Jónasson. Ætli það segi ekki ...
Björn Þór Sigbjörnsson

18. Júlí 2008

ÞAKKAÐ FYRIR SIG


Ég átti stórkostlegan afmælisdag í gær, fimmtudaginn 17. júlí, fékk fjöldann allan af gjöfum og kveðjum - í bundnu máli og óbundnu - og að sjálfsögðu blómin einsog í körfunni sem sjá má hér að ofan, með blómum í íslensku fánalitunum,  frá vinum mínum í Starfsmannafélagi Færeyja. Veðrið var yndislegt - hlýtt og stillt og sólríkt að undanskildum hitaskúr sem kom þegar ræðumenn kvöddu sér hljóðs. Stórkostlega góðar og skemmtilegar ræður voru fluttar enda engir viðvaningar á ferðinni: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem stýrði samkomunni af glæsibrag, Steingrímur J. Sigfússon,  Geir H. Haarde, Guðni Ágústsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Hjörleifur Guttormsson, séra Gunnþór Ingason, sem flutti drápu auk eldheitrar ræðu, Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson sem einnig flutti mér kveðju í bundnu máli ( sjá að neðan þegar þar að kemur) og Kjartan Gunnar Kjartansson, fræðimaður og blaðamaður. Ómar Ragnarsson, flutti ávarp og ...

17. Júlí 2008

ERU ENGIN VIÐURLÖG VIÐ ÞVÍ AÐ EYÐILEGGJA EFNAHAGSKERFI ÞJÓÐAR?

Það sést lítið af þeim í kastljósum sjónvarpsstöðvanna núna drengjunum sem
voru að ráðleggja almenningi hvaða hlutbréf hann ætti að kaupa til að verða ríkur. Þeir virðast líka forðast kastljós fjölmiðlanna bankastjórarnir sem með vanþekkingu sinni og kúltúrleysi bera ábyrgð á því að útrásin sem svo er nefnd fór í vaskinn. Nú tala þeir ekki um samfélagslega ábyrgð sína þegar heilt samfélag, heilt efnahagskerfi þjóðar, er á heljarþröm af því þeir stóðu sig ekki í stykkinu. Þeir halda sig heima og láta lítið fara fyrir sér í rándýru...
Ólína

17. Júlí 2008

ÞURFUM BJARTSÝNA RÍKISSTJÓRN

Birtist í DV 16.07.08.
DV...Aðra skýringu á óvinsældum ríkisstjórnarinnar er hugsanlega að finna í hinu óreglubundna göngulagi sem stjórnin hefur tamið sér. Þegar einn ráðherra stígur fram þá stígur annar aftur og þegar einn talar í norður má bóka að síðar þann sama dag muni annar tala í suður. Um þetta er Evrópuumræðan dæmigerð. Auðvitað mega ráðherrar hafa mismunandi sjónarmið og áherslur. En þetta er nú einu sinni ríkisstjórn og það sem máli skiptir fyrir landslýð er að fá að vita hvað hún hyggst taka sér fyrir hendur sem slík. Björn Bjarnason dómsmálaráherra á síðasta útspilið ... 

16. Júlí 2008

EFNT TIL AFMÆLISHÓFS

Á morgun fylli ég 60 ár og hef ákveðið að efna til afmælishófs fyrir vini og velunnara af því tilefni. Þetta geri ég undir bláhimni við götuna mína, Grímshagann í Reykjavík. Ég á góða granna sem leyfa mér að tjalda yfir götuna fari svo að veðurguðirnir stríði mér. Veðurspáin lofar hins vegar góðu. Ég er að endurtaka leikinn frá því fyrir tíu árum en þá hafði ég nákvæmlega þennan sama hátt á. Ég set þetta hér á síðuna enda þótt á henni  sé sjaldan að finna persónulegt efni. Hins vegar langar mig til að fastagestir síðunnar viti að þeir eru hjartanlega velkomnir á Grímshagann - sem er botnlangi út úr Suðurgötu - á milli  klukkan 17 og 20 á morgun, fimmtudaginn 17. júlí!

16. Júlí 2008

GÖMUL FRÉTT SPLUNKUNÝ

...Mörður Árnason segir til að mynda eftirfarandi: "Það eru nýjar upplýsingar að það hafi verið samið um þetta sérstaklega við stjórnarmyndun,". Þetta er ekki rétt hjá Merði. Upplýsingarnar eru ekki nýjar. Þessar upplýsingar birtust á heimasíðu...
Guðmundur

15. Júlí 2008

GÓÐ EVRÓPUUMRÆÐA

Evrópuumræða ykkar Bjarna Benediktssonar alþingismanns í Kastljósinu í gærkvöld var um margt ágæt. Það er löngu kominn tími til að víkka þessa umræðu út og færa hana í annan farveg en hún hefur verið í. Það var alveg hárrétt hjá þér að tala um "músarholusjónarhorn" Samfylkingarinnar á Evrópumálin. Samkvæmt orðabók Samfylkingarinnar merkir Evrópuumræða sama og umsókn um inngöngu í Evrópusambandið. Með þessu móti er lýðræðislegri umræðu gefið ...
Grímur

11. Júlí 2008

AÐEINS EINN SKOÐANAHÓPUR GERIR ÚT FJÖLMIÐLA Á ÍSLANDI!


...Þarna voru svið sem þeir komust ekki inn á nema með takmörkunum. Þessar takmarkanir og skorður er nú verið að fjarlægja eina af annarri. Þar með er dregið úr lýðræðinu en vald auðsins aukið að sama skapi. Svo eru það fjölmiðlarnir. Fyrr á tíð gáfu skoðanahópar, það er stjórnmálaflokkarnir, út dagblöð. Nú gerir einn skoðanahópur út  fjölmiðla. Það eru talsmenn einkavæðingar og markaðshyggju; sömu mennirnir og eiga fjármagnið, einkavædda bankana og nú líka alla helstu fjölmiðla landsins að undanskildu  RÚV ohf sem enn er í eigu ríkisins. Í Fréttablaðinu kemur fram að þeir feðgar, Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson eigi nú meira en helming í Árvakri sem gerir út Morgunblaðið, 24 stundir og mbl.is.  Blaðið segir að þeir ...

11. Júlí 2008

FORDÓMALAUS UMRÆÐA UM EES?

Birtist í Morgunblaðinu 10.07.08.
MBL  - Logo...Þarna eru farin að rekast á annars vegar markaðshyggja og miðstýring Evrópusambandsins og hins vegar lýðræðislegur vilji okkar. Ef lýðræðið og skerðing á því er ekki stórmál sem kallar á umræðu í okkar samfélagi er ég illa svikinn. Enda er það svo að þótt stofnanaveldið sé afundið hafa viðbrögð við greinum mínum almennt í samfélaginu verið afar sterk og jákvæð...

11. Júlí 2008

AÐ VERA TEKINN ALVARLAEGA

Birtist í Fréttablaðinu 10.07.08.
Fréttabladid haus...Nú gerðust undur og stórmerki. Þeir sem áður höfðu látið í veðri vaka að þeir vildu umræðu um Evrópumál virtust vilja kveða tal mitt niður umræðulaust! Varaformaður  Samfylkingar talaði um „heimsku" að ég skyldi voga mér að hreyfa þessum málum! Leiðarhöfundur Fréttablaðsins sagði að ég yrði að skýra mál mitt miklu betur ef taka ætti  „þingmanninn alvarlega."...

11. Júlí 2008

GUÐLAUGUR ÞÓR RANGFÆRIR

Birtist í Viðskiptablaðinu  10.07.08.
Föstudaginn 4. júlí birtist viðtal við Guðlaug Þór Þórðarson, heilbrigðisráherra, í Viðskiptablaðinu. Viðtal þetta er mikið að vöxtum enda víða komið við. Guðlaugur Þór segir blaðamanni frá áhuga sínum á því að koma á norrænum „heilsumarkaði" og auka „fjölbreytni í rekstrarformi" innan heilbrigðisþjónustunnar. Þetta kemur fram í svari við þeirri spurningu blaðamanns um hvernig GÞÞ ætli að „láta kné fylgja kviði" við að koma í framkvæmd æskuhugsjónum ráðherrans frá þeim tíma sem hann var í SUS og lofaði ....

10. Júlí 2008

HVERNIG VÆRI AÐ SELJA BÍLINN PÁLL?

Ruv bilinn PM 01
Nýlega bárust fréttir af uppsögnum starfsmanna í RÚV ohf. Þessu mótmælti Svanhildur Kaaber, sem sæti á í stjórn stofnunarinnar fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Hún benti á að ríkisstjórnin hefði ekki staðið við fyrirheit sín um fjárframlög til stofnunarinnar. Menntamálaráðherra sagði eitthvað á þá leið að RÚV yrði einsog aðrir að haga seglum eftir vindi og nú blési ekki byrlega í þjóðarbúskapnum. Þessi svör duga ekki...

9. Júlí 2008

RÁÐLEGGINGAR PETYU

Birtist í 24 stundum 08.07.08
24 stundirEkki hef ég nokkurn skapaðan hlut á móti henni  Petyu Koeva. Það væri ekkert annað en ánægjuefni að fá hana til Íslands  ef ekki væri fyrir árásir hennar á láglaunafólk, aldraða og öryrkja. Þannig er að Petya er formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hélt hér fréttamannafund fyrir nokkrum dögum til að segja Íslendingum fyrir verkum við efnahagsstjórnina.
Þar tók sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undir gamalkunna  kröfu fjármálafyrirtækja og fjárfesta að aðgreina þurfi almennar lánveitingar Íbúðalánasjóðs  frá félagslegum úrræðum; að ekki megi hækka laun ríkis- og bæjarstarfsmanna og alls ekki bætur almannatrygginga.  Stjórnvöld yrðu í þessu efni að „standast þrýsting"...

4. Júlí 2008

EES OG HRÁA KJÖTIÐ

Ég var ánægður með greinar þínar um EES. Þú náðir að varpa sprengju inn í annars staðnaða umræðu. Oft þegar reglugerðarsinnar Evrópusambandsins kalla eftir umræðu um kosti og galla báknsins meina þeir einungis kostina. Punkturinn um Íbúðalánasjóð er góður. Af hverju á að banna okkur Íslendingum að reka kerfi sem reynst hefur þvílíkur bjargvættur fyrir fjölskyldurnar í landinu? Auðvitað er það m.a. vegna þess að innan ESB er sterk nýfrjálshyggjualda. Íslensku bankarnir sem hafa skilið við sig allt sem eina rjúkandi rúst skildu þetta og kærðu því sjóðinn til báknsins. En ég hef velt fyrir mér svipuðum hlutum þegar kemur að...
Halli Hólm

3. Júlí 2008

VIRKJUM ÁRNA

Ég tek heils hugar undir með Bjarna sem skrifar þér hér á síðuna og vill að Árrni Mattt, fjármálaráðherra, verði settur á bónusgreiðslur, árangurstengd laun. Því meiri hagnaður fyrir ríkissjóð þeim mun meira í vasa Árna (les: lægri laun ríkisstarfsmanna og minni þjónusta, þeim mun meiri tekjuafgangur og þar með meira í árangursgreiðslur fyrir Árna)  Ég er sannfærður um að með...
Haffi

3. Júlí 2008

SAMFYLKINGIN VINSÆLLI EN BJÖRK?

...En að umhverfisráðherrann myndi standa fyrir þessari glæsilegu útihátíð og baráttusamkomu finnst mér stórkostlegt. Síðan er verið að þakka Björk þetta einni. Ég heyrði ekki betur en Þórunn tæki eitt lag á tónleikunum eða hvort hún var í bakröddunum. Hví þegja fjölmiðlarnir um þetta? Hvers á Samfylkingin að gjalda? Ég er sannfærð um að  ef ráðherrar Samfylkingarinnar fengju að njóta sannmælis þá væru þeir miklu vinsælli en ...
Sunna Sara   

3. Júlí 2008

ER KOMINN TÍMI TIL AÐ GANGA ÚR EES?

Birtist í Morgunblaðinu 02.07.08.
MBL  - LogoEnda þótt ég hefði frá upphafi miklar efasemdir um ágæti EES samningsins hef ég þó fram til þessa ekki verið því fylgjandi að við segðum okkur frá honum, einfaldlega vegna þess að það er eitt að gerast ekki aðili að EES og leita eftir tvíhliða samningi einsog m.a. Sjálfstæðisflokkurinn vildi gera áður en til kastanna kom, annað að ganga út úr hinu Evrópska efnahagssvæði eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að ganga þar inn. Síðan samningurinn var gerður höfum við þurft að sitja undir endalausu ógagnrýnu mærðartali um ágæti EES, sérstaklega frá...

3. Júlí 2008

AÐ GETA EKKI HORFST Í AUGU VIÐ SJÁLFAN SIG

Birtist í DV 02.07.08.
DVÞegar svo er komið að forsætisráðherra þjóðarinnar líkir gagnrýninni fréttamennsku við dónaskap, einsog gerðist nýlega, og þegar umhverfisráðherra segist ekki leyfa myndatökur af ísbjarnarhræi því þær gætu reynst óþægilegar, þá erum við komin nálægt því sem á góðu máli heitir ritskoðun. Þægilegar myndir, óþægilegar fréttir. Hver er munurinn? Þessi spurning vaknaði þegar iðnaðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu um álver á Bakka við Húsavík nýlega. Iðnaðarráðherra sá samhengið þarna á milli. Honum var greinilega  ekki um það gefið að ...

3. Júlí 2008

„SKAMMASTU ÞÍN!"

Birtist í 24 Stundum 02.07.08.
24 stundirÁgætur kunningi minn sagði nýlega að sér þætti merkilegt að nú þegar Kalda stríðinu er lokið, Berlínarmúrinn orðinn að molum í bréfapressum á borðum heldra fólks, Kaninn farinn heim  til sín, og friður hefur brotist út a.m.k í okkar heimshluta,  þá taki Samfylkingin sig til og stofni her- og varnarmálaráðuneyti og leyniþjónsutu í lokuðu rými á Miðnesheiði. Þetta er mikið rétt hjá kunningja mínum enda höfum við mörg furðað okkur á því hvernig Samfylkingin ætli að skýra og réttlæta milljarða fjáraustur úr skatthirslum almennings á meðan...

3. Júlí 2008

EES TIL ÓÞURFTAR

Birtist í Fréttablaðinu 02.03.08.
FrettablaðiðUm síðustu helgi voru forsíður tveggja íslenskra blaða, Morgunblaðsins og Fréttablaðsins undirlagðar kröfum um að Íslendingar gengju tafarlaust í Evrópusambandið. Í öðru blaðinu var vitnað í viðskiptamógúl og hinu talskonu banka. Kvöldið áður hafði framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, haft uppi svipaðan málflutning í ljósvakamiðlum og talsmaður fjármálastofnana sagði að íslenska ríkið væri hugsanlega skaðabótaskylt vegna þess að dómsaðili í Brüssel  hefði komist að þeirri niðurstöðu að Íbúðalánasjóður samræmdist ekki markaðsskilmálum á hinu Evrópska efnahagssvæði. Meintur glæpur...

2. Júlí 2008

HVÍ EKKI BÓNUSA Í STJÓRNARRÁÐIÐ?

Mér er lífsins ómögulegt að skilja af hverju laun ríkisstjórnarinnar og æðstu embættismanna ríkisins eru ekki árangurstengd. Árangurstengdar greiðslur til Árna Matt eru augljóst réttlætismál í ljósi mikilla bónusgreiðslna til bankastjóra, forstjóra og annarra fyrirmanna í viðskiptalífinu. Hjá hinu opnbera fara menn sem bera mun meiri ábyrgð gagnvart almenningi en gerist í viðskiptalífinu. Fjármálaráðherra gæti t.d. átt rétt á ...
Bjarni

2. Júlí 2008

Hólmfríður Bjartmarsdóttir skrifar: HERÐUBREIÐ AÐ INNAN

Um daginn sagði vinur minn mér brandara. Stefán frá Möðrudal var að sýna gestum sínum málverk og einn þeirra benti á Herðubreið og sagði: "Er hún ekki of stór frá þessum sjónarhóli séð?" "Þú ættir að sjá hana að innan."sagði Stórval. Í bókinni Draumalandinu segir Andri Snær að halda mætti að Ísland væri stærra að innanmáli en utanmáli. Ég hló. Menn tala alltaf um litla Ísland með stóru ósnortnu víðernin og óþrjótandi óbeislaða orku. Á dögunum sá ég í sjónvarpi Árna Johnsen og Elísabetu Jökulsdóttur ræða tónleika Bjarkar og Sigurrósar til styrktar umhverfismálum. Elísabet stóð sig vel en Árni tuggði orkusölulummuna og kallaði Björk barnalega. Mér finnst Árni ...

2. Júlí 2008

TAKK ÞÓRUNN!


Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráherra, upplýsti í Kastljósviðtali í kvöld  að það hefði verið hún sem vann að undirbúningi tónleikanna sem Björk, Sigurrós, Ólöf Arnalds og Ghost Digital og Finnbogi Pétursson  komu fram á í Laugardalnum í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Ef ég á að segja alveg einsog er þá hafði mig alltaf grunað einmitt þetta, að á einhvern hátt væru þessir frábæru tónleikar Samfylkinginni að þakka. En að það hafi verið sjálfur umhverfisráðherrann sem skipulagði tónleikana var extra bónus. Ef ég skildi viðtalið við Þórunni umhverfisráðherra rétt þá höfðu þær unnið að undirbúningi tónleikanna saman hún og Björk. Frábært framtak. Takk. Allt í þágu náttúruverndar. Gegn stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar. Yfirlýsingarnar sem birtust á risaskjá á tónleikunum um náttúruspjöllin voru sláandi. Skyldi textinn hafa verið...

1. Júlí 2008

BANKARNIR HEIMTA SITT

...Afborgunin hefur því hækkað um rúmar þrjú þúsund krónur vegna hækkunar vaxta og verðbóta og höfðustóll lánsins lækkar ekki nema um rúmar átta þúsund krónur þrátt fyrir 12 þús. króna afborgun. Í mínum augum er þetta ekkert annað en okur. Vextir og verðbætur af umræddu láni hafa hækkað úr 5,8% í 26,5% eða yfir 20. Bankarnir eru farnir að heimta hærri vexti en vanskilavexti af láni sem alltaf hefur verið í skilum...
Valgeir Bjarnason

28. Júní 2008

ÍSLANDSTÖFFARAR: BJÖRK, LILJA OG SIGURRÓS


Því miður missti ég af fyrstu tónleikaatriðunum í Laugardalnum í kvöld, auglýstum Radium og Ólöfu Arnalds.  Radium á ég eftir að kynnast, líka Ólöfu Arnalds sem allir sem til þekkja segja að sé á leið í fyrstu deild. Til hamingju með það Ólöf. Enginn deilir um að í fyrstu deildinni eru hins vegar Björk sem sannaði í kvöld hvað það er sem til þarf til að fanga heiminn! Það gerði Sigurrós líka. Í gærkvöldi hlustaði ég á Benna Hemm Hemm á útgáfuhátíð Draumalands Andra Snæs fyrir enskumælandi markað í Norræna húsinu. Þá rann það upp fyrir mér - eða kannski á ég að segja að ég hafi fengið staðfest - það sem ég áður vissi, að til er orðinn hinn íslenski tónn; íslenskt sérkenni í tónlist! Glæsilegt fólk! Gæsahúð og unaðstilfinning!! Mikið er stórkostlegt að finna fyrir baráttu þessa fólks fyrir náttúru Íslands. En þá er kominn þriðji töffarinn sem ég vil nefna. Það er hún Guðfríður Lilja...

27. Júní 2008

ER SAMFYLKINGIN ORÐIN GALIN?


...Ég hélt að hámarkinu væri náð þegar Condi Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, höfuðtalsmaður Íraksinnrásarinnar og Guantanamó pyntingabúðanna,  fékk skartgrip að gjöf frá formanni Samfylkingarinnar og kossaregn frá þeim Ingibjörgu Sólrúnu og Geir. Þá hélt ég sannast sagna að niðurlægingin gæti ekki orðið meiri. Samfylkingin fékk fylgi í síðustu kosningum m.a. vegna stefnuyfirlýsingar sinnar undir kjörorðinu „Fagra Ísland". Fyrirheitin um umhverfisvernd eru nú svikin einsog að drekka vatn. Ég spyr, hvaða umhverfis telur ráðherra umhverfismála sig vera að gæta? Stássstofu ríkisráðsfunda á Bessastöðum? Eru ráðherrastólar dýrmætari en náttúruperlur Íslands? Er Samfylkingin algerlega samviskulaus? Eða er hún...

26. Júní 2008

ÓNÝT RÍKISSTJÓRN

Birtist í 24stundum 25.06.08.
24 stundir...Nú skal játað að að undirritaður hefur minni áhyggjur af vísitölu stundargróðans en langtímahagsmunum íslensks samfélags. Af hinu síðarnefnda er hins vegar ástæða til að hafa verulegar áhyggjur. Vandinn sem við stöndum frammi fyrir er nefnilega ekki skammtímavandi á hlutabréfamarkaði. Við horfum upp á langtímavanda, gjaldþrot þeirrar peningafrjálshyggju sem hér hefur verið rekin í nær tvo áratugi. Ríkisbankarnir voru einkavæddir og við þeim tóku silkiklæddir fjármálamenn sem reynst hafa ...

26. Júní 2008

FLUGUMFERÐARSTJÓRAR OG KJARABARÁTTAN


Það er verst hvað samfélagið og þá ekki síst fjölmiðlaumhverfið er oft latt og værukært. Alltof fáir nenna að setja sig inn í flókin mál. Einmitt í þessu sýnist mér vera fólginn vandi flugumferðarstjóra sem standa nú í ströngum í kjarasamningaviðræðum í Karphúsinu. Þeim er úthúðað fyrir að stefna ferðaiðnaði í vandræði vegna verkfalla.  Ég hlýt að taka undir með þeim sem hafa áhyggjur af truflunum í flugi á háannatíma. En hverjum er um að kenna?Flugumferðastjórar tóku því ekki fagnandi þegar þeir voru „hlutafélagavæddir" í tíð síðustu ríkisstjórnar. Sýnt var þá að ýmis kjaramál þyrfti að leiða til lykta í tengslum við breytinguna. Það var aldrei gert að fullu. Þá voru - og eru - einnig til staðar ýmis ...

25. Júní 2008

ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR, RÍKISSTJÓRNIN OG ÁBENDINGAR JÓNS BJARNASONAR

Stundum þarf að benda á einfaldar staðreyndir til að þær verði öllum augljósar. það gerir Jón Bjarnason alþingismaður í mjög svo umhugsunarverðri grein í Morgunblaðinu í dag. Jón fjallar þar um nýlegar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar varðandi Íbúðalánasjóð. Hann nefnir tvennt sem sérstaklega er vert að huga að: Í fyrsta lagi sé verið að stíga skref í þá átt að gera Íbúðalánasjóð að heildsölubanka (nokkuð sem fjárfestingafyrirtæki hafa krafist um árabil að gert yrði gegn mótmælum almennings). Í öðru lagi segir Jón að ívilnanir til byggingaverktaka og lánafyrirgreiðsla þeim til handa sé í reynd ekkert annað en byggðastyrkur til ...

24. Júní 2008

VERÐMYNDUN OG ÁBYRGÐ

...Undirritaður hefur fylgst nokkuð með gjaldeyrishreyfingum á Íslandi það sem af er þessu ári (eða eftir að heimsfjármálin fóru að hafa verulega neikvæð áhrif á fjármögnunarmöguleika íslenskra banka og annarra) og finnst þær benda til þess að íslensku bankarnir séu í svipaðri stöðu og lýst er í X-landi. Við bætist að það er erfitt að verjast þeirri hugsun að þeir hafi nýtt þessa aðstöðu varðandi verðmyndun á krónunni á heldur groddalegri hátt en getur samræmst skynsamlegum hugmyndum um siðferðislega ábyrgð gagnvart almenningi þessa lands með tilliti til þeirrar aðstöðu sem ráðmenn hafa skapað þeim. Því það er kunnara en frá þurfi að segja að ...
Árni

24. Júní 2008

ÞYKIR ÞJÓÐINNI NÓG KOMIÐ AF AFTURHALDI?


Menn velta því fyrir sér hvers vegna fylgi ríkisstjórnarinnar fari nú ört dalandi...Hér hefur nefnilega verið innleiddur hrá-kapítalismi 19. aldarinnar sem neitar að viðurkenna allt sem heitir samfélag. Þannig hafa bankastjórar talað í mín eyru um ójafnræði á markaði þegar samfélagið vogar sér að reka sameiginlegan Íbúðalánasjóð fyrir alla landsmenn! Frá Brüssel hafa þessir afturhaldsmenn sótt sinn styrk í gegnum EES samninginn sem aldrei skyldi gerður hafa verið. En enda þótt gjaldþrot óheftrar markaðshyggju hljóti að vera hverju barni augljóst virðist ríkisstjórnin staðráðin í að skrönglast áfram með sömu stefnuna, fela fjárglæframönnum raforkugeirann, heilbrigðiskerfið og aðra grunnþætti samfélagsins til rekstrar. Síðasta afrekið er að ...

23. Júní 2008

ÍHÖLDIN AÐ VESTAN...

...Hitt er svo umhugsunarefni nokkuð, að þeir sem segjast þjóðhollir eru á móti virkjunum og verklegum framkvæmdum, sem áður voru talin til framdráttar fátæku fólki og til að auka og efla dáð þeirra, hvar sem þeir annars kunnu að búa. Nú mega öngvir hreyfa þúfu, (ef hún er á tilteknum svæðum Eyjaförðurinn undanþeginn samanber hugmyndir um gat yfir í Vaglaskóg) öðruvísi en flokksmenn þínir verði snar vitlausir og nánast froðufelli af heilagri reiði náttúruverndarsinna. Beljandi allir í kór ,,Er sælt að vera fátækur elsku Dísa mín" rómantíkk skorts og vanlíðan. Fyrirgefðu en ég vildi svona heilsa að vestfirskum sið og þakka þér skemmtileg skrif og á stundum furðulega lík og lífskoðun mín liggur til. Svona erum við íhöldin, að vestan...
Miðbæjaríhaldið

23. Júní 2008

MARKAÐSVÆÐING Í BOÐI SAMFYLKINGARINNAR


Kristján L. Möller, samgönguráðherra Samfylkingarinnar, efnir til hátíðar næstkomandi fimmtudag. Þá býður hann til stofnfundar hlutafélags um rekstur og þjónustu á Keflavíkurflugvelli. Þar sem ég þekki til - í röðum starfsfólksins - þykir þetta ekki vera neitt sérstakt fagnaðarefni eða tilefni hátíðar enda veit fólk sem er, að ráðist er í hlutafélagavæðinguna með tvennt í huga: Í fyrsta lagi að hafa réttindi - og þá helst lífeyrisréttindi - af starfsfólki; starfsumhverfið verður að sögn sveigjanlegra eftir að réttindin hafi verið skert. Í hlutafélagi sé til dæmis hægt að segja starfsmanni upp starfi skýringarlaust, nokkuð sem ekki sé hægt í opinberum stofnunum. Í öðru lagi sé þetta leið til að hlú að forstjóraliðinu, sem með þessu móti komist út úr opinberu launaumhverfi og fái þess í stað skömmtuð kjörin úr hendi skilningsríks meirihluta í stjórn háeffsins. Slíkri skömmtunarstefnu til pólitískt útnefndra vildarvina sé unnt að ...

22. Júní 2008

AFBURÐAFÓLKIÐ OG VIÐ HIN


...Á kannski að selja dýrt aðganginn að dvalarheimilum fyrir aldraða svo hægt verði að borga forstöðufólki með „reynslu og kunnáttu"á borð við þá sem Guðmundur Þóroddsson telur sig búa yfir almennileg forstjóralaun?  Eða gæti verið að hæfileikafólk sé víðar að finna en í stjórnunarstöðum? Getur verið að þegar allt kemur til alls snúist þetta um að hafa jafnvægi á milli gjaldtöku, skatta, þjónustu og launa? Og að þegar einblínt er á launin sé viðfangsefnið að deila launasummunni út á réttlátan hátt þannig að allir þeir sem sinna verðugum verkefnum fái mannsæmandi laun...Annars er það ekki amalegt fyrir íslenskt „hæfileikafólk" að hafa fengið eins öfluga talskonu og Kolbrúnu Bergþórsdóttur á leiðarasíðu Morgunblaðsins. Verra fyrir okkur hin sem ...

22. Júní 2008

FJÖLMIÐLAR UPPLÝSI UM HAGSMUNATENGSL STJÓRNMÁLAMANNA


Hinn 12. Júní skrifar Jóhann Hauksson, fréttamaður einkar athyglisverðan pistil á DV bloggið undir heitinu Litla sæta kunningjaþjóðfélagið. Greinin fjallar um tengsl stjórnmálamanna, bein og óbein, við heilbrigðiskerfið - sama heilbrigðiskerfi og Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra einkavæðir sem mest hann má með dyggri aðstoð Samfylkingarinnar. Ég vil þakka fyrir þessa grein. Á daginn kemur að stjórnmálamenn eru sjálfir á kafi í bisniss sem tengist einkavæðingunni.  Þeir eru með öðrum orðum hagsmunatengdir í beinhörðum peningum. Það sem ég furða mig mest á er að Jóhann Hauksson skuli vera einn á báti þegar kemur að rannsóknarskrifum af þessu tagi. Hvar er nú Kastljósið, Spegillinn, Ísland í dag, Fréttablaðið, 24 Stundir og Morgunblaðið?
Það er helst  að horft sé til

22. Júní 2008

BANKARNIR Í LUKKUPOTTI RÍKISSTJÓRNAR-INNAR

...Aðgerðirnar munu hvorki bjarga fasteignamarkaðnum frá hruni né duga til að rétta stöðu krónunnar. Með þeim duttu bankarnir hins vegar í lukkupottinn. Þeir eru með þessu skornir úr snörunni sem þeir voru komnir í vagna fasteignalána og yfirvofandi fasteignamarkaðskrísu og veitt lausafé frá ríkinu á tíma þegar slíkt er hvergi að fá á frjálsum markaði. Kaupþing bjó að miklu leyti til fasteignabóluna sem ríkisvaldið, í krafti Íbúðalánasjóðs, býðst nú til að taka á sig skellinn af. Jafnframt slapp bankinn naumlega við ...
Skattgreiðandi

21. Júní 2008

NÝI ALÞÝÐU-FLOKKURINN?

...Af hverju ber ekki Samfylkingin einfaldlega rétt nafn og heitir Alþýðuflokkurinn úr því hún er meira og minna komin úr felum með gömlu áherslur kratanna í Evrópumálum, hernaðarmálum, fjandskapinn við íslenskan landbúnað og dekur við þá auðmenn sem eru upp á kant við Sjálfstæðisflokkinn? Þið Vinstri græn eruð þó a.m.k. sæmilega heiðarleg í því að þykjast ekki vera eitthvað annað en þið eruð. Um Framsókn og þá hjá Frjálslyndum er nú erfitt að segja meðan þeir virðast ekki vita sjálfir hvað þeir vilja eða hvert þeir eru að koma eða fara. En mér finnst mikilvægt að þessir þrír alvöru flokkar í landinu...
Guðmundur S.

19. Júní 2008

BANKARNIR AÐ HAFA SITT FRAM?


...En ríkisstjórnin hefði þurft að ganga lengra. Hún hefði þurft að hækka hámark lána Íbúðalánasjóðs upp í 24 milljónir til þess eins að tryggja að lánveitingar væru í einhverjum takti við raunverulega þróun húsnæðisverðs.  Þótt hámarkið hefði verið hækkað á þennan hátt þyrfti kaupandi venjulegs húsnæðis eftir sem áður að leita út á rándýran markaðinn um fjármögnun 20-40% húsnæðisins. Slíkt hefði hins vegar ekki dugað bönkunum og er það væntanlega til að þjóna lund þeirra að hámarkið skuli ekki vera hækkað meira en í 20 milljónir. En þar með er ekki öll sagan sögð því Íbúðlánasjóði verður nú gert að veita fjármagni til bankanna til þessara  umfram lánveitinga. Með öðrum orðum, með milligöngu Íbúðlanasjóðs fá bankarnir fjármagn með ríkisábyrgð til að lána okkur peninga - á hærri vöxtum  en Íbúðalánasjóður gætri gert án þessarar milligöngu!...

16. Júní 2008

Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: AF VÖRNUM LANDSINS

Nú er búið að stofna varnarmálaráðuneyti. Hver óvinurinn er gegnir öðru máli. Nefndir hafa verið til sögunar Rússar, Talibanar, hryðjuverkamenn og ef til vill fleiri... Í mínum huga er það óvéfengjanlegt að helsti óvinur Íslendinga eru náttúruöflin: jarðskjálftar, eldgos, snjóflóð, sjávarflóð, ofsaveður og fleira. Varnir Íslands eru fólgnar í að verja okkur fyrir náttúruöflunum, að svo miklu leyti sem það er hægt. Hver mínúta getur verið dýrmæt og bjargað mannslífum.

13. Júní 2008

ÁRÁSARGJÖRN STARFSMANNA-STEFNA HJÁ STRÆTÓ VERÐUR EKKI UMBORIN

Mig langar að spyrja hvort það sé rétt að borgarstjóri hafi lagt blessun sína yfir framkomu framkvæmdastjóra Strætó bs.gagnvart trúnaðarmönnum okkar. Hafi hann sagt að þetta væri allt saman í góðu lagi og stjórnendur strætó á grænni grein með sín starfsmannamál, mun þetta fyrirtæki einfaldlega hrynja að mínu mati. Og þá er ef til vill tilganginum náð hjá þeim. Ég treysti mér ekki til að vinna hjá fyrirtæki með árásargjarna starfsmannastefnu, svo ég tali aðeins fyrir mig. Ég er búin að vinna hjá Strætó ...
Sigríður

13. Júní 2008

Einar Ólafsson skrifar: Utanríkis-ráðherrann og hernaðar-hyggjan

Það er engin metnaður til að andæfa... Það er engin gagnrýni á hin geigvænlegu hernaðarútgjöld, þessa fjármuni sem sogast frá knýjandi velferðarmálum yfir í eyðileggjandi og friðspillandi mátt vopnanna. Það er dapurlegt að horfa á stjórnmálaforingja, sem hófst til vegs á vettvangi kvenfrelsisbaráttunnar og hins frísklega Kvennalista, sprikla í þessu fúla neti, öfgafyllstu birtingarmynd karlveldisins.

12. Júní 2008

MÉR ER BARA SPURN!

...Ég var að lesa grein þína með fyrirsögninni "BROTTREKNIR RÆSITÆKNAR Í VALHÖLL?"
Þú drepur á uppsagnarmál ræstitækna og læknaritara ásamt að starfsmenn og meðlimir í BSRB voga sér að fara á fund heilbrigðisráðherra í húsakynnum stjórnmálaflokks hans!  Það sem ég fæ ekki skilið, er, hvernig stendur á því að verkalýðshreyfingin leyfir heilbrigðisráðherra að haga sér eins og hann gerir, án þess að fara í verkfall!  Þar á ofan hvernig það getur átt sér stað að meðlimum verkalýðshreyfingarinnar leyfist að láta sér detta í hug, að láta andstæðinginn narra sig í vígstöðvar hans!
Ég hreinlega skil þetta ekki; er verkalýðshreyfingin orðin handónýt?  Er verkalýðshreyfingin orðin aðeins...
Úlfur

12. Júní 2008

LANDSPÍTALINN GEGN GEÐSJÚKUM?


...Lögregla og tollgæsla þurftu „auka aðstoð" við tollgæslu við innkomu okkar í Schengen. Securitas var fengið til starfans. þessu var kröftuglega mótmælt og í kjölfarið horfið frá þeirri ráðagerð. Gagnrýnin beindist ekki að einstaklingum sem starfa fyrir Securitas heldur var bent á að um opinbera þjónustu gildi strangar reglur borgaranum til varnar. Sagt var: Ef fela á einhverjum heimild til að ganga nærri minni persónu með leit og eftirgrennslan þá krefst ég þess að slíkt heyri undir allar þær varnaðar- og varúðarreglur sem samfélagið hefur sett um opinbera starfsmenn. Þetta viðurkenndu stjórnvöld - á endanum. En á þetta ekki við um geðsjúkt fólk? Ætti þetta ekki jafnvel frekar við um fólk sem á sér enga vörn vegna sjúkleika síns? Forsvarsmenn Landspítalans sýna með þessari ákvörðun  mikið dómgreindarleysi. Um þessa ráðstöfun verður aldrei friður.

11. Júní 2008

BROTTREKNIR RÆSTITÆKNAR Í VALHÖLL?

Birtist í Fréttablaðinu 09.06.08
Fréttabladid hausVefsíða Landspítalans auglýsir fundi fyrir starfsmenn Landspítalans með heilbrigðisráðherra. Ekkert nema gott um það að segja að heilbrigðisráðherra vilji sitja fyrir svörum hjá starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og eðlilegt að Landspítalinn auglýsi þetta framtak ráðherrans. Það sem hins vegar er óvenjulegt við þetta fundarboð á vef Landspítalans er að fundarstaðurinn skuli vera Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins...

8. Júní 2008

NÚ VERÐUM VIÐ AÐ HLUSTA


Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum og þá einnig hér á þessari heimasíðu, flutti Allyson Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi, afar lærdómsríka fyrirlestra í Íslandsheimsókn sinni undir síðustu mánaðamót. Umhugsunarverðast við fyrirlestra þessarar bresku fræðikonu er tengingin við það sem er að gerast hér á landi. Áform Guðlaugs Þórs, heilbrigðisráðherra og samherja hans (atburðaráðsinni er ekki bara stýrt úr heilbrigðisráðuneytinu) rímar nákvæmlega við það sem Bretar framkvæmdu, fyrst undir verkstjórn Íhaldsflokksins og síðar Nýja Verkamannaflokksins ( sem reyndist jafnvel harðdrægari í einkavæðingu en sjálft Íhaldið).  Þess vegna segi ég...

7. Júní 2008

FRÁBÆR MENNINGARHÁTÍÐ

Nr.1
Með ánægjulegustu samkomum  sem ég sæki eru hinar árlegu Menningarhátíðir BSRB í Munaðarnesi... Í Munaðarnesi er á hverju sumri - og hefur svo verið í tæpa tvo áratugi  - efnt til málverkasýningar en við opnun hennar er haldin Menningarhátíð. Að þessu sinni er það sýning myndlistarkonunnar Soffíu Sæmundsdóttur sem prýðir þjónustumiðstöðina og stendur sýningin til 1. október nk. ...Á Menningarhátíðinni er jafnan reynt að bjóða upp á það besta á sviði ljóðlistar og tónlistar og í dag var þar engin undantekning á. Stórkostlegt var að hlusta á eitt okkar allra besta og vinsælasta skáld, Þórarin Eldjárn, skáldið með djúpu röddina og alvarlegu, flytja ljóð sín. Í þeim er hvert orð og hver setning svo úthugsuð að þau fanga salinn í einu vetfangi. Djúp hugsun, óborganlegur húmor og glaðbeitt háð, ofið saman við gamla bragarhætti, gerði það að verkum...

6. Júní 2008

Finnur Dellsén skrifar: ÞEGAR TÆKIÐ VERÐUR AÐ MARKMIÐI

Umræðan um hugsanlega inngöngu Evrópusambandið virðist vera orðin keppni um það hvaða sjálfstæðismaður getur sagt „aðild að ESB snýst aðeins um hvar hagsmunum Íslands er best borgið" oftast í einum sjónvarpsþætti. En er ekki eitthvað verulega bogið við málflutning af þessu tagi? Að baki hennar liggur auðvitað hugmynd um að hagsmunir séu eiginleiki sem eigna beri þjóðum fyrst og fremst en ekki einstaklingum, eða réttara sagt stéttum...

6. Júní 2008

TVÍSKINNUNGUR Í EFTIRLAUNA-MÁLINU

...Sjálfri finnst mér eftirlaunaósóminn einna verstur, ekki vegna þess að það sé stærsta málið, alls ekki, heldur vegna hins hve táknrænt það er. Samfylkingin lét meðal annars kjósa sig á þeirri forsendu að nú yrði tekið á spillingu af þessu tagi, því gætu kjósendur treyst. En hvað gerist? Það sýnir sig að ENGIN aslvara var að baki og átti í besta falli að gera minniháttar breytingar á lögunum en ekki afnema þau einsog gefið var í skyn. Þá hefðu ráðherrar líka þurft að ...
Sunna Sara

6. Júní 2008

HVAÐ ER AÐ GERAST HJÁ STRÆTÓ BS?

Mér þykir þú undalega hljóður um Strætó bs Ögmundur. Þar hefur logað allt stafna á milli vegna áminninga og uppsagna á trúnaðarmönnum. Öðru hvoru kemur þú fram í fjölmiðlum með málsvörn fyrir trúnaðarmenn en ég hefði búist við ...
Grímur

6. Júní 2008

ÖLL VELKOMIN Í MUNAÐARNES Á MORGUN


Á morgun verður haldin hin árlega Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi í Borgarfirði. Menningarhátíðin, sem hefst klukkan 14,  er haldin í tilefni þess að opnuð er sýning á málverkum Soffíu Sæmundsdóttur, myndlistarkonu. Sýningin stendur fram til 1. október. Við opnunina mun Þórarinn Eldjárn rithöfundur lesa úr verkum sínum og sungin verða ljóð úr Heimskringlu Þórarins við lög eftir Tryggva M. Baldvinsson. Það er Hallveig Rúnarsdóttir sem syngur við undirleik Hrannar Þráinsdóttur. Í boðskorti sem sent hefur verið út er auglýst að Eyjólfur Eyjólfsson syngi einnig en svo verður ekki því hann á að koma fram á tónleikum á Sauðárkróki síðdegis á morgun og nær ekki að vera á tveimur stöðum. Þá syngur hinn borgfirski Freyjukór...

5. Júní 2008

HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU KOLLVARPAÐ?

Birtst í DV 04.06.08.
DVSíðastliðinn laugardag splæstu íslenskir skattborgarar í stóra auglýsingu í Morgunblaðinu. Þar auglýsti ríkisstjórnin eftir forstjóra í svokallaðri „Sjúkratryggingastofnun". Þetta er stofnun sem fáir þekkja enda er hún ekki til. Þannig er mál með vexti að rétt áður en alþingismenn fóru í jólafrí mætti Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra í þingsal með harla óvenjulegt þingmál. Það fól í sér heimild til að ráða formann í stjórn „Sjúkratryggingastofnunar". Ekki voru allir tilbúnir að samþykkja að veita ráðherranum þessa heimild möglunarlaust. Bent var á að rétt væri að fá fyrst samþykkt lög um þessa nýju stofnun, síðan kæmi að því að ráða áhöfnina. Heilbrigiðsráherra sagði að ...

5. Júní 2008

HOLLVINASAMTÖK ÍSLENSKRA AUÐMANNA

Það er í tísku að tala um smjörklípur, þegar stjórnmálamenn leitast við að beina athygli frá leiðindamálum. Nú hefur Samfylkingin gengið í lið með auðmannagæslumönnunum í Sjálfstæðiflokknum og allt lagt undir til að bjarga íslensku auðmannastéttinni og bönkunum þeirra. Lykilatriðið er að viðhalda verðtryggingunni. Hún er aðferð til að blóðmjólka almenning án þess að það beri of mikið á því. Allar verðbreytingar í heiminum, allar gengisbreytingar, allar verðhækkanir, allt hækkar skuldir almennings gagnvart bönkunum. Þetta kerfi þekkist hvergi á byggðu bóli annars staðar.Við afnámum...
Hreinn Kárason

4. Júní 2008

SKYLDI EAMONN HAFA EITTHVAÐ LÆRT?


...En þótt við leggjum mikið upp úr umburðarlyndi  hljótum við engu að síður að gera lágmarkskröfur um gæði, ekki síst þegar taka höndum saman rannsóknarsetrið RSE, Viðskiptablaðið, Viðskiptaráð og Háskóli Reykjavíkur en allir þessir aðilar standa að komu Eamonns Butlers, forstöðumanns Adam Smith Institute í London. Hann flytur fyrirlestur í boði þessara aðila í vikulok.  Eamonn þessi Butler kom hingað til lands í ágúst árið 2003 til fyrirlestrahalds. Hann lofsöng einkavæðingu sem mest hann mátti, sagði hana hafa tekist með miklum ágætum í Bretlandi  og hvatti Íslendinga óspart til að halda inn á þessa braut ekki síst í heilbrigðiskerfinu; sagði að með einkavæðingu þar væri hægt að stórhækka laun og jafnframt ná 20-40% sparnaði! Við þessar yfirlýsingar sperrtu margir heilbrigðisstarfsmenn eyrun enda...

4. Júní 2008

PÓLITÍK EÐA ÞJÓNUSTULUND Á LANDSPÍTALA?

Í dag boðaði Guðlaugur Þór þórðarson, heilbrigðisráðherra, starfsfólk Landspítalans til fundar í Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins. Landsmálafélagið Vörður stóð fyrir fundinum sem auglýstur var á vefsíðu sjúkrahússins. Skyldu aðrir stjórnmálaflokkar hafa nýtt sér þessa þjónustu Landspítalans, að auglýsa fundi í húsakynnum þeirra? Landspítalinn hefur annars verið liðlegur með að lána húsnæði fyrir pólitíska kynningarfundi, nokkuð sem frambjóðendur allra flokka þekkja úr kosningabaráttu. Okkur starfsfólki hefur þótt það vera ...
Ljósmóðir

4. Júní 2008

STYRMIR AF MORGUNBLAÐSVAKTINNI


...Eftir að Styrmir varð frjáls af Kalda Stríðinu og í einhverjum mæli Flokknum, var sem hann tæki sig til flugs. Þá fékk hin gagnrýna hugsun og manngildissjónarmiðin sem hann augljóslega ber í brjósti fyrir alvöru að njóta sín. Ég nefni heilbrigðismálin, stríðsrekstur Bandaríkjanna og NATÓ  á undanförnum árum og misserum í Asíu og víðar sem hann gagnrýndi hart, orkumál,  umhverfismál, misskipting í þjóðfélaginu og síðast en ekki síst málefni geðsjúkra sem hann studdi betur en allir aðrir áhrifamenn í íslenkum fjölmiðlum..Frjáls Styrmir er góður skríbent. Vissulega gat sviðið undan skrifum hans, í mínum flokki sem öðrum. En þannig á það ...

3. Júní 2008

ELDHÚSRÆÐAN Á ALÞINGI

...Ég tel að einmitt óþjóðhollustan hafi skapað þotuliðið og fjárglæfrafólkið sem hefur aðskilst og fjarlægst þjóðfélagið og stefnir nú tilveru okkar sem þjóðar í bráða hættu, eins og þú hefur svo oft komið inná.  Það hefur semsé stokkið úr sameiginlegum þjóðarbátnum og rær því ekki sömu árum og við!  Það er annað fólk sem fer í aðra átt en við Íslendingar!...
Úlfur

3. Júní 2008

HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNI RÁÐIÐ HEILT?


Þeir félagar Guðlaugur þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, eiga sér draum. Sá draumur er að koma á markaðskerfi fyrir heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Þeir eiga stuðning hjá hægri sinnuðum mönnum í sínum flokkum... Þetta er sama hugsun og „Nýi Verkamannaflokkurinn" undir forystu Tonys Blairs hefur framfylgt í Bretlandi en sá flokkur er í stjórnartíð sinni kominn vel á veg með að koma breska heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið...

2. Júní 2008

TVÍSKINNUNGUR "HERLAUSRAR" ÞJÓÐAR


...Mér kom þetta í hug þegar núverandi utanríkisráherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagði við opnun nýrrar „Varnarmálaskrifstofu" í gær að Ísland hefði verið og yrði herlaust land. Og hún bætti því við, að Ísland herjaði á engan! Þetta er rangt! Ísland átti beinan þátt í árásunum á Júgóslavíu 1999 og hefur verið beinn aðili að stríðsátökunum í Afganistan og Írak í gegnum NATÓ.  Að mínu mati er það að sumu leyti heiðarlegri afstaða að senda eigin ungmenni inn á stríðsvettvang  en að samþykkja að ungmenni annarra þjóða skuli send í hernað í árásarskyni og tala síðan af upphafningu um eigið vopnleysi og friðarást. Ef alvara væri að baki beitti ráðherrann sér fyrir því að ...

1. Júní 2008

GUÐLAUGUR ÞÓR AUGLÝSIR


Í gær birtist auglýsing í Morgunblaðinu frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Auglýst er starf forstjóra „sjúkratryggingastofnunar." Þessi stofnun er ekki til. Kannski er þetta eins konar afsökunarbeiðni því í auglýsingunni er okkur sagt að þar sem Alþingi hafi ekki samþykkt lög um þessa stofnun verði að framlengja umsóknartímann...

31. Maí 2008

BOÐSKAPUR POLLOCKS Á ERINDI VIÐ ÍSLENDINGA


...Nú eru Bretar hins vegar að vakna upp við þann vonda draum að vegna andvaraleysis sitji þeir uppi með kerfi sem enginn vilji nema þá fjármálamennirnir sem vita sem er að hægt er að hafa gífurlegan haganað af heilbrigðisþjónustunni komist þeir á annað borð yfir hana. Þetta má ekki henda á Íslandi. Því miður hefur það sýnt sig að Samfylkingunni er ekki treystandi í þessu efni, annað hvort er hún blind á einkavæðingaröflin eða reiðubúin að þjóna þeim. Á komandi mánuðum verður að efna til kröftugrar umræðu um þessi mál þannig að þegar Alþingi kemur saman í september verði búið að upplýsa þingmenn. Þá vita þeir líka hvað til þeirra friðar heyrir.

31. Maí 2008

KRÓNAN ER EKKI VANDINN HELDUR BANKARNIR

...nema hvað það er rangt að halda því fram að gjaldmiðillinn eigi í vanda. Krónan hefur lækkað, það er allt og sumt, aðeins minna en dollarinn. Það eru bankarnir sem eiga í vanda, EKKI krónan. Krónan er mælieining. Það er einsog að segja að sentímeterinn eigi í vanda ef maður er ekki nógu hávaxinn. Að skeiðklukkan eigi í vanda ef ...
Hreinn Kárason

28. Maí 2008

EFNDIR EN EKKI NEFNDIR

...Mig langaði til að þakka þér fyrir frábæra ræðu á Alþingi í gær. Það er gott að þú birtir hana hér á síðunni. Þú segir það sem segja þarf. Það eru auðstéttir í landinu og svo eru hinar vinnandi stéttir, og þú talar fyrir fólkið í landinu. Mér fannst Guðni Ágústsson í góðu formi líka....Og hvernig er með kvennastéttirnar? Ég tilheyri einmitt "umönnunarstétt" og finnst niðurlægjandi að fá enn eina ríkisstjórn sem svíkur okkur. Ingibjörg Sólrun og Samfylkingin var margsinnis búin að lofa því að leiðrétta okkar kjör...
Guðrún

27. Maí 2008

Drífa Snædal skrifar: TEKIÐ TIL Í KERFINU!

Stundum stendur valið á milli þess að senda frá sér ályktun eða grípa til aðgerða. Í þeirri stöðu vorum við nokkrar konur sem ákváðum að hreinsa til með táknrænum hætti í dómsmálaráðuneytinu síðasta föstudag. Það er full þörf á því að taka til hendinni þar eins og á fleiri stöðum í stjórnkerfinu. Baráttunni gegn mansali hefur verið haldið uppi af félagasamtökum síðustu ár og Vinstrihreyfingunni - grænu framboði. Aðgerðaáætlanir hafa verið samdar, fundir haldnir með ráðherrum og fjöldi þingmála lagður fram í tilraun til að berjast gegn sölu á konum hér á landi. Fáir efast um að mansal þrífist á Íslandi og stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að vinna gegn því með undirritun alþjóðasáttmála. Óteljandi...

27. Maí 2008

Í ELDHÚSI ALÞINGIS


Ræða í Eldhúsdagsumræðum á Alþingi
...En risasvaxnar lántökur án nauðsynlegs uppskurðar í efnahags- og fjármálakerfinu er ráðstöfun sem lítið hjálpar - getur jafnvel verið varasöm ef ekkert annað er að gert. Hið skynsamlega er að skipta upp bönkunum, í þann hluta sem þjónar íslensku atvinnulífi og hinn sem er að gambla á erlendum mörkuðum. Um þetta hafa menn lagt fram einfaldar og skynsamlegar útfærslur. Í upphafi þessa þings lagði Vinstrihreyfingin grænt framboð fram ítarlegar og efnismiklar tillögur um fyrirbyggjandi ráðstafnir  og skref sem stíga mætti til að styrkja undirstöður efnahagslífsins. Nú er svo komið í þjóðfélaginu að....

25. Maí 2008

BJÖRGUNARSAMNINGUR BSRB


...Sú hætta var fyrir hendi - það er að segja ef menn hefðu ekki tekið að af skarið og samið nú - að kjarasamningar hefðu farið í hægagang og jafnvel dregist fram á haustið. Fimm mánaða töf hefði þýtt að hver og einn hefði orðið af eitt hundrað þúsund krónum auk þess sem launahækkanir á grunntaxta skila sér í hækkun afleiddra stærða svo sem yfirvinnu og álags í vaktavinnu. Því hefði verið um að ræða mun hærri fjárhæð sem fólk hefði orðið af....  

24. Maí 2008

ÞAÐ RIGNIR Á ÞOTURNAR


... Ég segi við Actavis, hjálpið okkur að stöðva kjararýrnun almennings, sem er í frjálsu falli. Takið þátt í því að slátra verðbólgunni. Lækkið lyfjaverð um 20%. Ferðist með Flugleiðum og Iceland Express. Þið búið á Íslandi og eruð Íslendingar. Leyfið þotunum að...

23. Maí 2008

LOKSINS RÓTTÆKNI

...Loksins finnst mér vera komin einhver róttækni í femínistana hér á landi. Það er sko eins gott að einhver berjist af alvöru gegn því að konur gangi kaupum og sölum á Íslandi. Það hefur viðgengist allt of lengi að þessir strippklúbbar séu í gangi og það er vitað mál að ýmislegt misjafnt þrífst í þessum klúbbum. Sumum  finnst þetta hallærislegar aðgerðir og jafnvel heimskulegar en þetta minnir mig á aðgerðir rauðsokkanna hér fyrir þrjátíu árum síðan. Það var almennileg barátta og bar árangur þar sem fóstureyðingar voru leyfðar og leikskólum komið upp. Þessi baráttugleði sem ég sá í dag er ...
Snær frá Lundi

20. Maí 2008

EKKI BRASKA MEÐ LÍFEYRISSJÓÐINA!

 ...Vil bara koma á framfæri kæru þakklæti til þín fyrir andstöðuna gegn frumvarpi að lífeyrissjóðir megi lána eignir sínar í vogunarviðskipti. Á meðan launþegar eru þvingaðir til að vera í ákveðnum lífeyrissjóðum en fá ekki að ráða sjálfir hvar lífeyrir þeirra er geymdur kemur þetta ekki til greina. Einnig vitum við það öll að ef illa færi væri enginn ábyrgur og við gætum tapað því ...
Margrét

19. Maí 2008

Á MÓTI? EINSOG AMNESTY INTERNATIONAL?

...Ekkert er nógu geggjað til að leyfilegt sé að vera á móti því:  Olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum, eyðing Þjórsárvera, virkjanair á viðkvæmum stöðum, stil að selja orkuna svo á spottprís, innflutningur á 30.000 útlendingum á 4 árum. Allt sjálfsagðir hlutir í augum þeirra sem ætla sér að græða....Heilbrigðiskerfið. Nú á að fela hagsmunaaðilum að deila út gæðunum handa sjálfum sér. Fengnir eru læknar og auðmenn til að setjast yfir bráðina. Kæmi ekki á óvart þótt þeir kæmust að þeirri niðurstöðu að þessir hagsmunir væru best komnir í þeirra eigin vörslu...
Hreinn Kárason

19. Maí 2008

INGIBJÖRG ÞÓRÐAR, JÓHANNA SIG. OG LÖGFRÆÐINGAR Í BRUSSEL


Sigurvegari þjóðfélagsumræðu síðustu daga er Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags Fasteignasala. Hún hefur staðið keik fyrir hönd almennings og varið Íbúðalánasjóð og þar með almannahag. Nú er það heilagri Biblíu markaðshyggjunnar í Brussel sem á að beita til að banna okkur að reka húsnæðiskerfi sem grunur leikur á að hafi í sér einhverja félagslega þræði!  Þetta er boðorðið frá Evrópusambandinu, hinu fyrirheitna landi Samfylkingarinnar.....Þá er það eins og fjölmiðlar skilji ekki til fulls að yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, fela einnig í sér feigðina fyrir sjóðinn.....

17. Maí 2008

GEIR Í BLEIKU OG BLÁU

Geir HH i bleiku og bláu
Í morgun kom Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fram á fundi í Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðismanna. Hann tók sig vel út á mynd frammi fyrir risastórum bleikum og bláum bakgrunni . Það sem mér þótti merkilegast við þennan fund var sú yfirlýsing forsætisráðherra að hann hefði víst verið í vinnunni frá áramótum! Sem kunnugt er voru gárungar byrjaðir að kalla ríkisstjórn þeirra Geirs og Ingibjargar Sólrúnar, Þyrnirós. Kannski var það þess vegna sem forsætisráðherra þótti nauðsynlegt að upplýsa að ríkisstjórnin hafi alls ekki sofið. Sjálfur, kvaðst Geir hafa ...

17. Maí 2008

HRÁTT KJÖT, FJÖLMIÐLAR OG EIGENDUR ÞEIRRA

Mitt gamla blað Morgunblaðið stendur sig vel í að fjalla um frumvarp landbúnaðarráðherra um innflutning á hráu kjöti. Ég hef hins vegar tekið eftir því að Fréttablaðið sem er í eigu stærsta auðhrings landsins hefur nánast ekkert fjallað um þetta frumvarp. Það er athyglisvert í ljósi þess að í frumvarpinu felst ein róttækasta breyting á íslenskum landbúnaði sem ráðist hefur verið í. Hver ætli sé ástæða þess að þetta víðlesna blað greini ekki frá efasemdum um frumvarpið? Er það vegna þess að eigandi þess mun græða mest á því að frumvarpið verði samþykkt? Það er ...
Halldór Kári

15. Maí 2008

ÞRÍR SKOÐANAHÓPAR UM EFTIRLAUNALÖGIN


...Ég tel slíkar breytingar vera til þess fallnar að drepa málinu á dreif. Í þessum hópi er formaður Samfylkingarinnar og gott ef ekki líka þingfréttaritari fréttastofu Sjónvarps sem aftur og ítrekað birtir okkur afstöðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem róttæka tilraun til að ráðast gegn spillingunni í frumvarpinu. Fyrir fáeinum dögum birti Fréttastofan frétt um að formaður Samfylkingarinnar vildi afnema lögin og nú í kvöldfréttum mátti skilja umræðuna sem fram fór á Alþingi í dag á þann veg að Ingibjörg Sólrún berðist hatrammri baráttu gegn þeim sem stæðu í vegi fyrir því að „verstu skafankar" væru sniðnir af lögunum. Fyrir okkur sem vorum á staðnum var þetta ...

13. Maí 2008

FUNDAHERFERÐ VG UM MATVÆLAÖRYGGI OG FRAMTÍÐ ÍSLENSKS LANDBÚNAÐAR


Ég minnist þess þegar Þuríður Backman, félagi minn í pólitíkinni, fór að brýna mig að gleyma ekki að tala um matvælaöryggi þegar landbúnaðarumræðan væri annars vegar. Þuríður var forspá um þróunina. Alllangt er um liðið síðan hún sagði mér að heimurinn væri að breytast. Við stæðum ekki frammi fyrir þeim vanda einum að ná í ódýran mat heldur hinu að fá yfirleitt mat og að hann stæðist mestu gæðakröfur. Allir þessir spádómar eru að rætast. Sífur Samfylkingarinnar um að allt sé fengið með því að fá kjúkling á gjafaprís og kál sem ekkert kostar fær á sig aðra mynd ...Í dag og á morgun efnir Vinstrihreyfingin grænt framboð til fundaherferðar um þetta málefni. Hvet ég lesendur síðunnar til að lesa kynningarefnið fyrir fundina - í knöppum stíl hér að neðan - og þá ekki síður að sækja auglýsta fundi...

13. Maí 2008

SAMTÖK UM SAMFÉLAGSÁBYRGÐ


Hinn 1. maí síðastliðinn voru stofnuð Foreldrasamtök gegn  áfengisauglýsingum. Gengið var frá stofnskrá og kjörin fimm manna stjórn. Formaður er Árni Guðmundsson en hann hefur sinnt verkalýðsbaráttu og æskulýðsstarfi um langt árabil og meðal annars ... Vonandi tekst nýstofnuðum Foreldrasamtökum að vekja samfélagið til vitundar um ábyrgð sína. Það hlýtur að verða fjölmiðlum, félagasamtökum, bæjarstjórnum, fyrirtækjum, Alþingi og ríkisstjórn umhugsunarefni að til þessa þurfi að koma...

12. Maí 2008

MEÐVIRKNI EÐA ANDVARALEYSI?

Þakka þér fyrir greinina hér á síðunni um „fréttir" RÚV um eftirlaunalögin sem Ingibjörg Sólrún segir að eigi að afnema! Þegar betur er að gáð kemur fram að ekkert slíkt stendur til þótt fréttastofurnar hjálpi henni í þessum blekkingarleik annað hvort með meðvirkni eða andvaraleysi sínu. Það er einvörðungu verið að tala um að gera smávægilegar breytingar á lögunum sem mér sýnist að myndu til dæmis hvorki skerða kjör þeirra Ingibjargar Sólrúnar né Geirs Haarde.  Nú fara fréttastofurnar á fullt að ...
Guðrún Guðmundsdóttir

12. Maí 2008

MISVÍSANDI FRÉTTAFLUTNINGUR OG BLEKKINGARTAL UM EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ


Í gærkvöldi var flutt afar ónákvæm og misvísandi frétt í Sjónvarpinu undir fyrirsögninni  Umdeild eftirlaunalög felld úr gildi. Þegar leið á fréttina kom nefnilega í ljós að ekki stóð til að fella lögin úr gildi heldur gera á þeim smávægilegar breytingar....Frá því þessi illræmdu lög voru sett hefur á bak við tjöldin annað veifið verið reynt að ná samkomulagi um lágmarksbreytingar á þeim til að friða almenning. Í mínum huga eru þetta ekkert annað en pólitískar lýtalækningar og loddaraskapur af verstu sort.  Þetta eru hins vegar sömu breytingarnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar kynnti í Sjónvarpsfréttum í gærkvöld í upphafi fréttatímans! Það er eftir...

11. Maí 2008

ÓSÝNILEGI MAÐURINN


Mogginn birti skemmtilega mynd í vikunni sem leið. Hún var af skuggamynd  af manni. Undir myndinni var upplýst af hverjum myndin var. Flestir held ég þó að hafi  getað ráðið gátuna um ósýnilega manninn af sjálfsdáðum. Ósýnilegi maðurinn var nefnilega enginn annar en... Í hádegisfréttum RÚV í dag var viðtal við formann Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Viðtalið gekk út á að sanna fyrir okkur hve mikið þjóðin hefði grætt á því að hafa ríkisstjórn sem gerði ekki neitt... Svo var að skilja að helsta framlag ríkisstjórnarinnar væri aðgerðarleysið og ósýnileikinn. Þar höfum við það. Mogginn reyndist snjallari en við höfðum gert okkur grein fyrir...

11. Maí 2008

Helgi Guðmundsson skrifar: LÆKKA HÁIR STÝRIVEXTIR BENSÍNVERÐ?

...Bláa höndin í bankanum veifar stöðugri stýrivaxtahækkun, að sögn í þeim tilgangi að draga úr eftirspurn og lækka verðbólgu. Eins og allir hafa fyrir augunum hefur þessi stefna engu skilað, enda er verðbólgan ekki nema að takmörkuðu leyti upprunin í landinu sjálfu...Er þá ekkert hægt að gera? Hyggin og hagsýn húsmóðir myndi áreiðanlega álykta í þessa veru: Ef erlendar vörur hækka í verði gerum þá það sem hægt er til að hinar innlendu hækki minna eða jafnvel ekki. Byrjum á að lækka þá himinháu vexti sem fyrirtæki og almenningur þarf að greiða vegna hárra stýrivaxta. Lækkum þannig innlenda tilkostnaðinn. Við viljum ekki atvinnuleysi. Útflutningsatvinnuvegirnir eru í sæmilegum málum með hinu lága gengi. Veitum atvinnulífinu, ekki síst framkvæmdaiðnaðinum, hæfilega innspýtingu með því að stórefla Íbúðalánasjóð (bankarnir eru hvort eð er að éta það sem úti frýs), hægjum á en stoppum ekki. Um leið sýnum við umheiminum að við....

10. Maí 2008

HVERNIG SKIPT ER ÁBYRGÐ OG ÁVINNINGI

FL Group er stjórnað af þrítugum manni. Þetta félag hefur tapað 115 milljörðum á 9 mánuðum jafnhárri upphæð og nemur tæplega tíu prósentum af sparifé landsmanna. Í þessu félagi hafa lífeyrissjóðir fjárfest bæði beint og óbeint. Þessi þrítugi drengur er látinn bera ábyrgð sem enginn getur axlað. Bakvið þennan skjöld sakleysis, fela sig ...
Hreinn Kárason

9. Maí 2008

ER REYKJAVÍKURBORG SVONA ÓDÝR?


Ekki ætla ég að útiloka að eitthvað geri Rio Tinto Alcan vel. Eitt veit ég þó að Rio Tinto Alcan er engin brautryðjandi í umhverfismálum. Því fer fjarri. Reyndar svo fjarri að Río Tinto er talinn einhver versti og ósvífnasti umhverfissóði heimsins. Þessu fyrirtæki hefur Reykjavíkurborg nú heimilað að kaupa sig inn í átak um að fólk hjóli eða gangi í vinnuna. Mér er kunnugt um að svo ofbjóði jafnvel hörðustu umhverfissinnum samanlögð ósvífni stjórnvalda í Reykjavík og Rio Tinto að þeir hafi varla geð í sér að taka þátt í átakinu. Fólki finnst með öðrum orðum það vera misnotað. Þetta minnir óneitanlega á það þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sæmdi stríðsglæpafyrirtækið og umhverfisspillinn Bechtel sérstökum ...

9. Maí 2008

SINNA FRJÁLSLYNDIR ALMANNA-TENGSLUM FYRIR ÍHALDIÐ?

Sé að Kristni H. Gunnarssyni, þingmanni Frjálslyndra nægði nokkurra mínútna svar frá Guðlaugi Þór heilbrigðisráðherra og enn styttra framlag frá Ástu R. Jóhannesdóttur Samfylkingu,  sem varði heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins í bak og fyrir, til að sannfærast um að einkavæðing í heilbrigðisþjónustunni væri ekki á dagskrá. Fréttablaðið greinir í dag skilmerkilega frá þessari merku uppgötvun Kristins eftir utandagsskrárumræður á Alþingi. Það vill svo til að ég sá ...
Fyrrverandi kjósandi Samfylkingar   

8. Maí 2008

Á HNJÁNUM FRAMMI FYRIR FJÁRMAGNINU

Birtist í DV 07.05.08.
DV...Nýjasta afrekið er svo frumvarp sem gerir ráð fyrir að undanþiggja söluhagnað af hlutabréfum skattlagningu. Á það hefur verið bent að vegna frestunarheimilda og möguleika á að skjóta sér út fyrir landsteinana með söluhagnaðinn hafi þessi skattur sjaldnast verið inntur af hendi. Þegar frumvarpið kom upphaflega fram átti á móti niðurfellingu skattsins að afnema heimild til frádráttar vegna vinnu við hlutabréfaviðskiptin. „Það gengur ekki" sögðu þá fjármálafyrirtækin. Og stjórnarmeirihlutinn hlýðir. Fyrirsjáanlegt er því að við sitjum uppi með lög sem undanþiggja söluhagnað af hlutabréfaviðskiptum skatti og í ofanálag verður vinnan við að afla þessara skattlausu tekna einnig undanþegin skatti...

8. Maí 2008

EIGA BANKARNIR EKKI AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞJÓÐARSÁTT?

Stærsti hluti hagnaðar bankanna fólst í gengisfalli krónunnar.  Vantar ekki eitt gott gengisfall í júní til að redda öðrum ársfjórðungi? Stærsti áhrifavaldur í gengismálum eru bankarnir. Af hverju voru bankarnir ekki á samráðsfundinum um þjóðarsátt?
Hreinn Kárason

7. Maí 2008

ÞJÓÐARSÁTT UM HVAÐ?


...En til þess að þetta verði ekki bara orðagjálfur þarf meira kjöt á bein. Á Íslandi hefur misrétti færst í aukana á undanförnum árum. Á sama tíma hefur ríkisstjórnin hafið stórfellda einkavæðingu innan heilbrigðisþjónustunnar. Ef ríkisstjórnin ætlar að efna til þjóðarsáttar - nokkuð sem ég styð heilshugar - þá þarf hún að snúa af þessari braut; hefja markvissar aðgerðir til að jafna kjörin í landinu og vinda ofan af einkavæðingunni. Þar nægir ekki að láta staðar numið heldur ...

7. Maí 2008

NÓG KOMIÐ AF BULLI UM HEILBRIGÐISMÁL!

...Snýst pólitík Sjálfstæðisflokks og það sem er að gerast núna í heilbrigðismálum bara um kostnaðargreiningu? Svo mátti skilja á ráðherra. Ekki er hann vel að sér í málefnum spítalans, svo mikið er víst. Þar hefur um lítið verið talað annað síðustu árin og allur kraftur farið í kostnaðargreiningarnar, löngu áður en Guðlaugur Þór dúkkaði upp. Nei það sem ríkisstjórnin nýja er að gera í heilbrigðismálum er langt í frá að vera bara enn ein kostnaðargreiningin, sem nóg er af fyrir. Undir þetta kjaftæði íhaldsins í þættinum tók Björgvín viðskiptaráðherra að því er virtist af þvílíkri sannfæringu að það komst ...
Heilbrigðisstarfsmaður

6. Maí 2008

VANHÆFUR?

Er Benedikt Jóhannesson Engeyingur og stóreigandi í Sjóvá og öðrum tilvonandi hagsmunafélögum einkavæðingar heilbrigðisgeirans ekki bullandi vanhæfur sem yfirmaður Sjúkratryggingarstofnunar? Er ekki rétt að hann leggi fram yfirlit um eignasafn sitt og fjölskyldu sinnar í ...
H.K.

5. Maí 2008

UM FÓLKSFÆLNI OG FLISS

Var að lesa pistilinn um hinn glaðbeitta flissandi ÞÁTTASTJÓRNANDA í pólitík á Íslandi. Er skrítið að fólk missi áhugann á pólitískri umræðu, finnist hún þreytandi og innihaldslaus? Ég er sammála því að heilbrigðisráðherrann með sinn ótrúlega hroka talar fyrir sig sjálfur. Hann verður dæmdur af verkum sínum. Valdastrákarnir styðja hvor annan, og leitt að Björgvin ætli að spila með í þessari ótrúlegu umræðu um heilbrigðismál. Rétt eins og ...
S.A., starfsmaður Landspítala

4. Maí 2008

ÞÁ FLISSAÐI EGILL...


...Ég hef blandað mér nokkuð inn í umræðuna um heilbrigðismálin á undanförnum misserum og árum. Reynt að færa rök fyrir því að markaðsvæðing heilbrigðisþjónustunnar hafi samkvæmt rannsóknarskýrslum orðið dýrari og leitt til mismununar. Ekki vottaði fyrir röksemdum gegn þessum staðhæfingum okkar sem gagnrýnum stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum í þættinum í dag. Heilbrigðisráðherrann afgreiddi þvert á móti minn málflutning þannig að þar sem ég færi væri á ferðinni  Marteinn Mosdal  okkar þingmanna, eins og hann komst að orði.  Þetta mun vera aulafígúra úr skopþætti , sem  aldrei tekur rökum. Ja, hver skyldi ekki taka rökum? Varla ráðherrann, varla þáttastjórnandinn. Enda flissaði hann...

3. Maí 2008

RÍKISSTJÓRNIR SKIPTA MÁLI


Formaður Samfylkingarinnar, utanríkisráðherrann, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,  talaði um nauðsyn „þjóðarsáttar" á baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Gott ef formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, Geir H. Haarde, hefur ekki einnig orðað þessa hugsun. Hvað þau eiga við er mér hins vegar hulin ráðgáta....Oft hefur verið vísað til Þjóðarsáttarsamninganna, sem svo voru nefndir,  frá árinu 1990. Þar hafa iðulega verið uppi ýmsar söguskýringar, sem margar eiga það sammerkt að gera sem minnst úr hlut þáverandi ríkisstjórnar...Þótt ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur  sé rétt fram höndin virðist hún fullkomlega áhugalaus um að taka í þá hönd...  

3. Maí 2008

Friðrik Þór Guðmundsson skrifar: TÁKNA RAUÐIR TÚLIPANAR BLÁA HEILBRIGÐIS-STEFNU?

Eins og gengur var Samfylkingin með auglýsingu þennan hátíðisdag, rauða baráttuauglýsingu, þar sem talað var um "verkalýðinn". Það er til marks um breytta tíma að í auglýsingunni var helsta skrautið RAUÐIR TÚLÍPANAR. Altso hvað!? Túlípanar? Eru ekki rauðu RÓSIRNAR alþjóðlegt tákn jafnaðarmanna?! Síðast þegar ég vissi. Hvað táknar þessi breyting. Hefur jafnaðarmannastefnan verið yfirgefin og tekin upp einhver óútskýrð túlípanastefna? Og BEINT UNDIR þessari auglýsingu var önnur frá Háskólanum í Reykjavík (viljandi? tilviljun?) þar sem auglýst er "spennandi" meistaranám fyrir "framsækna stjórnendur" og frumkvöðla í heilbrigðismálum. Og takið nú eftir. Námið er sagt fyrir ...

2. Maí 2008

TEKIÐ UNDIR MEÐ 1. MAÍ RÆÐU

...Helgi bendir á eins og þú sjálfur hefur margoft gert, ásamt öðru góðu þjóðlegu fólki, að það verður ekki spornað gegn auðvaldinu á Íslandi frekar en annarsstaðar í heiminum án baráttu.  Né verða eignir þjóðarinnar endurheimtar úr krumlum auðvaldsins, nema með baráttu, já mjög líklega harðri baráttu!  ...Nú mun reyna á í hvaða fylkingu foringjar Samfylkingarinnar munu skipa sér í.  Mun það verða í þjóðlega fylkingu verkalýðshreyfingarinnar og félagshyggjufólks, eða mun Samfylkingin áfram að þjóna auðvaldinu almenningi og íslensku þjóðinni til höfuðs?...
Úlfur

1. Maí 2008

SKILYRÐI BSRB OG EFASEMDIR UM ENDURHÆFINGARSJÓÐ


1. maí ræða í Vestmannaeyjum.
...Á þessum málum verður nú að taka af festu og ábyrgð því eitt mega menn vita að okkar tilboð er ekki án skilyrða. .. lögð verði á hilluna áform um frekari einkavæðingu innan velferðarþjónustunnar og hætt verði að úthýsa láglaunahópum og koma fram við fólk eins og ómerkilegar stærðir  í bókhaldi ... Þá þurfum við að heyra hvenær stjórnvöld ætli að framfylgja fyrirheitum um að bæta kjör umönnunarstétta og annarra hópa sem búa við óviðunandi kjör og aðstæður?...Ætlar ríkisstjórnin Almannatryggingum rýrari hlut þegar farið verður að beina fjármagni inn í þennan nýja farveg Endurhæfingarsjóðs? Við þessu þurfa að fást svör....

1. Maí 2008

TURNAR

Háir gnæfa turnar tveir
Töfrabjörg og Vinnugeir
Þjóðin niðrá jörðu þreyr
þorrann, hvíslar: Ekki meir.
Hreinn Kárason

30. Apríl 2008

PSI: DRÖGUM RÉTTA LÆRDÓMA AF FJÁRMÁLAKREPPUNNI


...Í greinargerð PSI er vísað til þess að Alan Greenspan, fyrrum stjórnandi bandaríska seðlabankans ( US  Federal Reseve Bank), hafi fram á síðustu stund neitað að viðurkenna að nokkuð væri að í fjármálakerfi heimsins.  Nú segi hann að kreppan sé sú alvarlegasta frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Það verði án efa mörg fórnarlömb en vonandi verði ekki þeirra á meðal sú hugsun að leyfa markaðnum að leika frjálsum sem tæki til að tryggja stöðugleika í fjarmálakerfum á heimsvísu („ ..as the fundamental balance mechanism for global finance." ...). Þá er vitnað i Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrisssjóðsins, IMF, sem upphaflega gerði  lítið úr kreppunni en segir nú að hún sé mjög alvarleg en að þó séu ljósir punktar. Kannski geti kreppan orðið tilefni til ...

29. Apríl 2008

HVER BER ÁBYRGÐ Á TVEGGJA STAFA VERÐBÓLGU?

Ólíkt veðrinu er verðbólga ekki náttúrufyrirbæri, heldur ávöxtur skilnings-, getu-, og/eða ábyrgðarleysis þeirra sem standa að stjórn efnahagsmála almennt og stjórn peningamála sérstaklega. Íslenzk stjórnvöld hafa látið undir höfuð leggjast að stjórna peningamálum þjóðarinnar. Og telja sér það til ágætis að láta viðskiptabankana alfarið um þjóðhagslega mikilvæga hluti eins og erlenda skuldastöðu þeirra og...
Gunnar Tómasson

29. Apríl 2008

AUÐVALDSHÖLLIN

...Meðan Fríkirkjuvegur 11 var í eigu Templaranna hét húsið bindindishöllin. Á meðan á umræðunni um sölu hússins stóð á sínum tíma lögðu fulltrúar VG fram þá tillögu að húsið yrði gert að barnamenningarsetri og lá þá beint við að húsið yrði kallað barnahöllin. Nú þegar voldugasti fulltrúi fjármálafáveldisins á Íslandi fær húsið til eignar liggur náttúrulega beint við að kalla það auðvaldshöllina.
Þorleifur Gunnlaugsson

27. Apríl 2008

FRÍKIRKJUVEGUR 11 OG AUÐMANNAVÆÐINGIN


...Þessi hugsun hefur verið á undanhaldi undanfarin ár.  Þar til nú - fulltrúar VG þekkja þessa hugsun, hún er þeim greinilega eðlislæg. Þegar Íhaldið í Reykjavík leggst á hnén og afhendir peningafólki, af undirgefni, Fríkirkjuveg 11, ásamt lóð og umhverfi, þá rís Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, upp og mótmælir. Hann er ekki lengur einn. Fjöldi fólks er honum samstiga, reisir upp fána í baráttu sem ekki er séð fyrir endann á. Fyrir mitt leyti segi ég: Haf þú þökk Þorleifur. Ég styð þig í slagnum gegn auðmannavæðingunni. Þín barátta er lýðræðisbarátta og jafnframt barátta gegn valdi auðsins; auðvaldinu. Látum ekki allt verða falt...  

27. Apríl 2008

Finnur Dellsén skrifar: NÝJA VINSTRIÐ

Um þessar mundir er mikið gert úr því að vinstrihreyfingar séu í einhverskonar vanda, að þörf sé á hugmyndafræðilegri endurnýjun. Eins og venjulega koma þessi áköll frá hægri og fela í sér kröfu um að vinstrið hætti að vera til vinstri og verði hægrimenn eins og allir hinir. Það er reyndar eðlileg krafa ef maður hugsar stjórnmál út frá einvíðum hægri-vinstri skala, því á slíkum skala er eina mögulega hreyfingin yst frá vinstri einmitt til hægri. En við eigum ekki að vera hrædd við að tala um nýja vinstrið enda þarf það alls ekki að ganga út að gera málamiðlanir til hægri heldur getur það einmitt fólgist í meiri róttækni, eða róttækni á nýjum sviðum. Við megum ekki gleyma því að...

27. Apríl 2008

PÖSSUM UPP Á MATVÆLAÖRYGGIÐ!

Ég rakst á þína ágætu vefsíðu, og las pistil Skarphéðins Gunnarssonar og svar þitt til hans. Þú hefur góða vefsíðu Ögmundur og mun ég opna hana oftar.  Þú ættir að hafa fréttbréf til að senda manni, svona til að minna mann á!
Þú hefur 100% rétt fyrir þér Ögmundur, og það er erfitt að ímynda sér Íslendinga eins illa upplýsta og þessi Skarphéðinn er, um stöðu matvælaöryggis í heiminum. Og að reyna svo að blanda mataröryggi við pólitík með því að segja "Það má skilja á málflutningi ykkar VG og hluta Framsóknar " bla.bla.bla......  er ómerkilegt og heimskulegt.  Auðvitað á mataröryggi ekki að koma pólitík við frekar en...
Helgi Geirsson

26. Apríl 2008

BORÐAR ÓHRÆDDUR HRÁTT Í EVRÓPU

Varðandi fullyrðingu þína að ekki sé hægt að fá linsoðin egg í Evrópu þá er það algjör þvæla hjá þér og ég held þú vitir það. Þú hlýtur að setja þessa fullyrðingu fram af annarlegum tilgangi. Það má skilja á málflutningi ykkar VG og hluta Framsóknar að það sé hreinlega stór hættulegt að fá sér að snæða í Evrópu. Hvers konar andsk.... rugl er þetta og hverju þjónar svona vitleysa? Ég er t.d. mjög mikið fyrir ...
Skarphéðinn Gunnarsson

25. Apríl 2008

Á KÍNA AÐ GANGA Í EVRÓPU-SAMBANDIÐ?

Sögulega séð þá sveiflast gjaldmiðlar upp og niður hver gagnvart öðrum, enda er það tilgangur þeirra. Gjaldmiðill á meðal annars að vera barómeter á styrk efnahagslífs. Þannig eru sveiflur gjaldmiðils ekki merki um veikleika, heldur hitt að hann sé virkur og þjóni tilgangi sínum, sem stillingartæki og gefi auk þess upplýsingar til markaðsaðila um stöðu mála. Ef sú lógík sem nú er uppi að sveiflur gjaldmiðils merki að hann sé ónýtur, þá er hollt að skoða ...
Hreinn Kárason

25. Apríl 2008

ÞARF AÐ GERA HÚSLEIT HJÁ SAMKEPPNISSTOFNUN?


...Þrátt fyrir alla þessa sögu rak mig í rogastans þegar Samkeppnisstofnun kvað upp úr með það nýlega að Orkuveita Reykjavíkur mætti ekki eiga nema 3% hlut í Hitaveitu Suðurnesja, annað væri brot á Samkeppnislögum! Þetta gerist á sama tíma og fjárfestar í Geysir Green eru að kaupa sig inn í Hitaveitu Suðurnesja þvert á vilja stórs hluta landsmanna sem fyrir alla muni vill ekki að einkakapítalið (eins stöðugt og ábyggilegt og það nú er) fái eignarhald í auðlindum þjóðarinnar...

25. Apríl 2008

PÓLITÍSKIR HANDLANGARAR Á LANDSPÍTALA


...En þá er komið að hinum pólitísku handlöngurum, bisnissmönnunum á hvítu sloppunum;  fólkinu sem hefur allt sitt á þurru en leyfir sér að tala um nauðsyn á meiri „sveigjanleika" í rekstri Landspítalans. Hvað þýðir það í alvöru? Er ekki hægt að sameina og sundra, breyta út í hið óendanlega? Jú, það er hægt.  En duttlungastjórnun getur verið erfiðleikum háð. Og menn hafa lent í klandri sem hafa viljað vera á kaupi frá mörgum aðilum, tvöföldu og þreföldu kaupi, allt í senn. „Sveigjanleiki" þýðir að stjórnandinn fengi meira vald.... „Sveigjanleiki" þýðir líka að fáir verða í aðstöðu til að hnýsast í launakjörin á toppnum...

24. Apríl 2008

EINKAÞOTULIÐIÐ!

...Bruðl og siðfleysi einkaþotuliðsins er auðvitað til  ævarandi skammar enda algjörlega óverjandi. Það er hreint makalaust að þar skuli vera að verki formaður Samfylkingarinnar, stjórnmálaflokks sem kallar sig félagshyggju- og jafnaðarmannaflokk. Maður getur ímyndað sér að margur fyrrum foringi Alþýðuflokksins sé ...
Úlfur

24. Apríl 2008

GLEÐILEGT SUMAR!


...Í prýðilegri ræðu sinni í Hallgrímskirkju í dag fjallaði Guðbjartur Hannesson um mikilvægi þess að innræta æskunni vilja til að bæta heiminn. Forsenda þess væri að hver og einn ynni að því að bæta sjálfan sig. Í skátastarfi væri lögð áhersla á að styrkja einstaklinginn þannig að hann öðlaðist sjálfsöryggi en jafnframt þannig að hann temdi sér að sýna umhverfi sínu ábyrgð, jafnt samferðamönnum sínum sem náttúrunni...  

22. Apríl 2008

ABBAS Á ÍSLANDI OG AMNESTY INTERNATIONAL


...Ég varð við ákalli Amnesty International og tók upp mál hins dauðdæmda manns við  Mahmoud Abbas í viðræðum við hann á Bessastöðum. Fram hefur komið í fréttum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hafi gert slíkt hið sama á fundi með Abbas síðar um daginn. Er það vel. Hins vegar er ósköp dapurlegt að fylgjast með því hvernig Íslendingar lötra þá slóð sem Washington vísar þeim í málefnum Palestínu sem öðrum alþjóðamálum. Þá má ekki gleyma því að stjórn  Mahmouds Abbasar er ekki lýðræðislega kjörin heldur situr að völdum á forsendum og með stuðningi Ísraela og Bandaríkjastjórnar...

22. Apríl 2008

HVER MÁLAÐI ÞYRNIRÓS?

Líking ríkisstjórnar Geirs H. Haarde  við Þyrnirós smellpassar. Eiginlega passar hún hvernig sem á málin er litið. Geir sefur á meðan efnahagslífið fuðrar upp og Samfylkingin sefur á meðan Guðlaugur Þór  einkavæðir heilbrigðiskerfið. En spurning mín er þessi: Hver gerði málverkið sem ...
Kveðja,
Haffi

16. Apríl 2008

NOKKRAR ÁBENDINGAR Í KJÖLFAR FRÉTTA UM SKORTSÖLU LÍFEYRISSJÓÐA

Ofangreindar hugleiðingar endurspegla það sem mér finnst vera "lógíkin" í málinu. Ef svo er í raun og ráðagerðir stjórnvalda ná fram að ganga, þá er það eitt hugsanlega til bjargar hagsmunum lífeyrisþega að aðsteðjandi kreppa á peninga- og efnahagsmálum heimsbyggðarinnar gangi hratt yfir - og verði ekki mikið verri en þegar er orðið. Ef þær væntingar ganga ekki eftir, þá ...
Gunnar Tómasson

16. Apríl 2008

ÞYRNIRÓS


Eitt er dapurlegt í þessu sambandi. Það er ef svo skyldi fara að eftir alla fyrirhöfnina við stjórnarmyndunina fyrir ári við að skapa þá umgjörð að ríkisstjórnin hlyti heitið "Þingvallastjórn" - fréttamennirnir sem þurftu að keyra til Þingvalla á hverjum degi að ljósmynda þau Geir og Ingibjörgu  vera að mynda "Þingvallastjórnina" sína gleyma þessu ekki  - ef svo skyldi fara að á daginn kæmi að allt þetta hafi verið unnið fyrir gýg. Að "Þingvallastjórnin" sem auglýsingastofurnar áttu að búa til, komi bara til með að heita eftir prinsessu úr gömlu ævintýri...

15. Apríl 2008

...ALDREI Á MEÐAN VIÐ RÁÐUM EINHVERJU

Birtist í Fréttablaðinu 14.04.08.
FB logoFyrir skömmu fór fram á Alþingi umræða um einkavæðingu innan heilbrigðisþjónustunnar. Til sérstakrar umfjöllunar að þessu sinni var útboð á heilli legudeild á Landspítalanum, nánar tiltekið á deild fyrir heilabilaða á Landakoti. Allt var með hefðbundnum hætti við þessa umræðu. Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, sagði ekkert í reynd vera að gerast og fulltrúar Samfylkingarinnar tóku undir með honum: Ekkert nema gott eitt að gerast. Ég hef grun um að mörgum þyki þessi málflutningur farinn að hljóma nokkuð undarlega...

15. Apríl 2008

Einar Ólafsson skrifar: HUGMYNDIR UM AFNÁM LANDBÚNAÐAR-TOLLA ÚRELTAR?

Nú berast fréttir utan úr heimi af hækkandi matvælaverði, jafnvel svo að til uppþota hefur komið. Talað er um að brjóta þurfi ný lönd til ræktunar, jafnvel fórna regnskógum. Ég hef ekki haft tök á að leita nánari upplýsinga eða skýringa á þessu. Það hvarflar hins vegar að mér, og ég hef það eiginlega sem vinnutilgátu, ef svo má segja, að þetta tengist eitthvað hnattvæðingunni. Margir hafa gagnrýnt mjög áhrif hnattvæðingarinnar á landbúnað víða um heim, þar sem lögð er ofuráhersla á heimsviðskipti með landbúnað. Fjölþjóðleg fyrirtæki hafa keypt upp stór landsvæði í þróunarlöndunum og komið þar upp stórbúskap með tilheyrandi umhverfislegum og félagslegum afleiðingum, svo sem ...

15. Apríl 2008

ÞOTUFLAKKIÐ Á SÉR LÍKA BJARTA HLIÐ!

Í þotu flugu þétt í lund,
þeystu um víða geima.
Ó, hve sæl og ljúf er stund,
séu þau ekki heima.

Pjetur Hafstein Lárusson

14. Apríl 2008

PENINGAR EÐA MANNÚÐ?


...Í viðtalinu lýsir Magnús Pétursson sér sem jafnaðarmanni. Má skilja það svo að hann sé að vísa til krata af gamla skólanum en faðir hans sat um skeið á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn. Magnús segir í Morgunblaðsviðtalinu að hann átti sig ekki á því hvert ríkisstjórnarflokkarnir séu að fara, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking. Sá síðari heitir víst líka á hátíðastundum Jafnaðarmannaflokkur Íslands. Skyldi gömlu Alþýðuflokksmönnunum, sem Magnús Pétursson er kominn af, finnast Jafnaðarmannaflokkur Íslands (einsog formaður og varaformaður Ingibjörg Sólrún og Ágúst Ólafur skilgreina hann) rísa undir nafni?...

14. Apríl 2008

VÖLDIN HAFA FÆRST TIL AUÐMANNA

ojfrettablViðtal í Fréttablaðinu 13.04.08
Efnahags- og félagslegum ávinningi 20. aldarinnar er ógnað, að mati Ögmundar Jónassonar. Auðmenn deili og drottni á eigin forsendum en ekki samfélagsins og ásælist sífellt fleiri svið til að athafna sig á. Í samtali við Björn Þór Sigbjörnsson kveðst Ögmundur vilja hækka við þá skattana og fela samfélaginu sjálfu að styðja þurfandi. Þeirri víðtæku sátt sem skapaðist um miðbik síðustu aldar um mikilvægi samtakamáttar og almennrar velferðar stendur ógn af gömlum og nýjum sérhyggjulausnum. Þetta er mat Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB og þingmanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem óttast að íslenska samfélagsgerðin skaðist af auknum völdum auðmanna.

14. Apríl 2008

HVER Á AÐ AXLA ÁBYRGÐ?

Hvernig væri að bændurnir við neðri Þjórsá tækju sig allir saman og myndu kæra Landsvirkjun fyrir sitt ofstæki...
Jón Þórarinsson

13. Apríl 2008

VILHJÁLMUR ERINDREKI EINKAVÆÐINGAR-SINNA

...Vihjálmur er framkvæmdastjóri SA, samtaka sem tala fyrir hönd fyrirtækja sem vilja einkavæða og komast yfir þessa starfsemi. Er þetta eðlilegt? Þú ert formaður BSRB, Ögmundur, minna samtaka, og hefur haft skoðanir á þessum málum; skoðanir sem eg er sammála. Á þetta að vera einstefnuakstur? Hefur þú verið boðinn á fund Ögmundur með Vilhjálmi Egilssyni um einkavæðingu á störfunum okkar?
Starfsmaður á Landspítala háskólasjúkrahúsi

13. Apríl 2008

GAGNRÝNIN Á HEIMA HJÁ RÍKISSTJÓRN, EKKI SEÐLABANKA


...Nú er löngu hætt að reyna efna til þjóðarsáttar á Íslandi. Nú er það einfaldlega hundsað þegar fulltrúar launafólks brydda upp á slíku. Það er helst að Morgunblaðið sýni slíku áhuga! Efnahagsúrræði ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar felast hins vegar  í því að skamma erlenda álitsgjafa og Seðlabankann, ekki bara fyrir vaxtastefnu bankans heldur líka fyrir spár sem hann hefur leyft sér að setja fram. Þá er talað af talsverðri vanþekkingu en jafnframt ótrúlegum hroka og rembingi um nauðsyn þess að fá fagmenn til starfa hjá bankanum....Ástæða er til að gera  skýran greinarmun annars vegar, á nagginu sem við heyrum nú þessa dagana og ...hins vegar málefnalegri gagnrýni sem á undanförnum árum hefur stundum verið sett fram á stefnu Seðlabankans...

13. Apríl 2008

Helgi Guðmundsson skrifar: SÆTTUST STÉTTIRNAR?

...Í viðtalinun víkur Ögmundur að þeim mikla samtakamætti sem þróaðist á 20. öld, segir jafnframt að náðst hafi mikill árangur, meðal annars á sviði mennta, vísinda og velferðar vegna hans. Síðan segir hann orðrétt: „Um þennan grunn myndaðist merkilega víðtæk sátt og það var ekki fyrr en undir aldarlokin undir verkstjórn Thathcers og Reagans og hirðar þeirra að þetta breyttist." Við þessi orð finnst mér ástæða til að staldra aðeins við. Á fyrstu árum sjötta áratugarins urðu hvað eftir annað harðvítug verkföll í landinu, sem náðu hámarki með sex vikna löngu allsherjarverkfalli á alennum vinnumarkaði árið 1955 (opinberir starfsmenn höfðu ekki verkfallsrétt). Verkfallinu lauk loks í apríllok með samningum um launahækkanir, og það sem meira var...

13. Apríl 2008

ÆVILANGT FANGELSI FYRIR FÍKNILYFJAGLÆPI!

...Hafðu í huga Ögmundur, að glæpamenn af þessu tagi hafa gert slíkan mannskaða af sér að þeir eiga dauðadóma fyllilega skilið!...ég hef alls enga meðaumkvun með fíknilyfjaglæpamönnum, hverrar þjóðar sem þeir eru.  Þeir eru öllu verri ef þeir eru íslenskir, þar sem þeir gera íslensku þjóðinni óbætanlegan skaða og skömm!
Ég hefði vonað að alþingismenn Íslands hefðu betra og þjóðþarflegra með tíma sinn og atorku að gera, en að taka upp hanskann fyrir fíknilyfjaglæpamenn... 
Úlfur

12. Apríl 2008

KRAFTUR, FRELSI, FRIÐUR - Í BOÐI RÍKISSTJÓRNAR-INNAR!

...Eftirgrennslan leiddi í ljós að Hreinn K. hefur rétt fyrir sér! Er ríkisstjórnin að gera grín að þjóðinni eða eru þetta kjánar í ímyndarnefndinni hans Geirs? Er nefndin á launum? Er þetta þá kannski nefnd sem vinnur eins og þau gera í Háskóla Íslands, svona klippt og skorið -cut and paste - nefnd? Er Geir H. Haarde, forsætisráðherra, kannski að flytja fyrirlestra um Animal Farm í útlöndum? Okkur er sagt að hann sé ...
Jóel A.

12. Apríl 2008

OKKAR DRENGUR Í FÆREYJUM


...Málið var til umfjöllunar í Kastljósi Sjónvarpsins í gær sem hinn galvaski fréttamaður, Helgi Seljan stýrði. Karen Dögg Kjartansdóttir, fréttakona á Fréttablaðinu og Pétur Gunnarsson, ritstjóri vefmiðilsins eyjunnar (eyjan.is)  ræddu  málefni vikunnar, þar á meðal þetta. Karen Dögg sagði undarlegt að eftir 170 daga einangrun væri það fyrst nú, eftir að málinu væri lokið, að utanríkisráðherra brygðist við og ganrýndi ómannúðlega meðferð á unga manninum í Færeyjum...Pétur Gunnarsson sagði þá nokkuð athyglisvert sem varð mér tilefni til umhugsunar...

11. Apríl 2008

SAMFYLKINGIN ER EKKI LÍTIL SÁL - EÐA HVAÐ?

...Að tala um flokkinn minn sem litla sál, eins og þú hefur gert Ögmundur og sumir lesendur þínir, er í hæsta máta óviðeigandi. Á sviði umhverfismála, utanríkismála og heilbrigðismála framfylgjum við okkar stefnu og fullyrði ég að lengra væri gengið í virkjanamálum, gagnvart NATÓ og í einkavæðingu heilbrigðiskerfisins ef okkar jafnaðarmanna nyti ekki við í ríkisstjórninni...
Jafnaðarmaður

11. Apríl 2008

GLEYMUM EKKI LÁGKÚRU GEIRS

Geir H Haarde segir umræðu um nýjasta ferðamáta ríkisstjórnarinnar vera lágkúrulega. Ég legg til að landsmenn allir gleymi þessum ummælum ekki í næstu kosningum...
Jón Þórarinsson

11. Apríl 2008

Huginn Þorsteinsson skrifar: FAGRA ÍSLAND, FÓRNARLAMB STJÓRNAR-VIÐRÆÐNA

...En þegar kom að viðbárum um af hverju flokkur talsmannsins hefði skipt um skoðun var farið úr öskunni í eldinn. Fyrst var því borið við að farið yrði í stóriðjustopp eftir að uppbygging álveranna væri lokið! Þá væri hægt að fara í fimm ára stóriðjuhlé!! Og ástæðan fyrir því að heill stjórnmálaflokkur sneri við blaðinu í málefnum Helgvíkur, hver skyldi hún vera? Jú, eftir kosningarnar sl. vor hefði mátt túlka Steingrím J. Sigfússon á þann veg að snúið væri að koma í veg fyrir framkvæmdir í Helguvík af ástæðum sem hann fór þá yfir og í framhaldinu margoft, hvernig hægt væri að yfirstíga þær. Fulltrúar Samfylkingarinnar gripu þetta viðtal, slitu það úr öllu samhengi, og hafa síðan notað það sem réttlætingu fyrir því að leggja á hilluna eigið stefnuplagg sem...

11. Apríl 2008

HA?

Var að lesa bréfið frá Hreini Kárasyni og er vægast sagt gáttuð. Ríkisstjórnin  virðist ramba inn á allar brautir sem liggja til Dýrabæjar Orwells. Skyldi þetta vera ásetningur eða eðlisávísun? ...Svo er líka góð ábending hjá Sverri Jakobssyni í Fréttablaðinu í dag um ...
Sunna Sara

11. Apríl 2008

ÍBÚÐAVERÐIÐ, LAUNIN OG LÁNIN


Seðlabankinn spáir því að húsnæðisverð lækki um 30% á næstu tveimur árum. Er það raunsæ spá? Það veit enginn. Hitt vita menn að spáin getur haft þau áhrif að líklegra sé að þetta gerist. Væri það eftirsóknarvert? Í fyrsta lagi ber að leggja áherslu á að allar stökkbreytingar á fasteignamarkaði eru slæmar. Um er að ræða keðjuverkandi samhengi kaups og sölu. Fólk sem keypt hefur á uppsprengdu verði á undanförnum þremur árum gæti átt erfitt með að losa sig við íbúðir sínar og kaupa nýjar í samræmi við ... Húsnæðisverð þarf að lækka verulega. Á höfðuborgarsvæðinu hefur orðið verðsprenging á undanförnum fjórum, fimm árum, langt umfram það sem Seðlabankinn spáir nú að muni ganga tilbaka...

11. Apríl 2008

OG SVO FLJÚGA ÞAU HEIM Í DÝRABÆ!

Í bók sinni 1984 lýsti George Orwell þjóðfélagi "Stóra bróður", leiðtogans mikla, sem var í raun mikill kúgari. Eitt af kúgunartækjunum var að spilla tungunni. Hann lét búa til nýtt tungumál sem kallaðist Nýmál (Newspeak). Fræg er tilvitnunin, þar sem verið er að lýsa breytingum sem Stóri Bróðir hefur látið gera á tungumálinu. Hann gefur út þá yfirlýsingu að héðan af skuli merking orða vera sem hér segir:
"Stríð er Friður"
"Frelsi er Þrældómur"
"Þekkingarleysi er Kraftur"
En er það ekki merkileg tilviljun að akkúrat nú skuli nefnd á vegum forsætisráðherra hafa komist að þeirri niðurstöðu að ...
Hreinn Kárason

10. Apríl 2008

HETJULEG BARÁTTA VIÐSKIPTARÁÐS?

 
...Í fyrirsögn á heimasíðu Viðskiptaráðs þar sem er að finna bölbænapistilinn um Íbúðalánasjóð er spurt hvort menn telji sjóðinn vera riddara á hvítum hesti. Augljóslega er svo ekki að mati Viðskiptaráðs. En hvers konar riddari skyldi þetta Viðskiptaráð annars vera? Er það yfirleitt að heyja hetjulega baráttu? Ekki þykir mér það. Það er dapurlegt hlutskipti að setja gróðahagsmuni ofar hagsmunum almennings eins og gert er í áralöngu einleti Viðskiptaráðsins gagnvart Íbúðalánasjóði.
Að lokum, hvenær skyldi Viðskiptaráði lærast að ríkið greiðir ekki niður vexti Íbúðalánasjóðs. Sá sjóður á hins vegar aðgang að  fjármagni á tiltölulega hagstæðum kjörum með ríkið sem bakhjarl sinn. Sams konar bakhjarl og bankarnir vilja nú að standi sér að baki...

9. Apríl 2008

SAMFÉLAGIÐ HALDI VÖKU SINNI


Í gær hófst þing Kennarasambands Íslands þar sem lagðar eru línur til næstu ára hjá sambandinu. Athyglisvert var að hlýða á ávörp sem flutt voru við setningu þingsins og ber þar fyrst að telja ræðu Eiríks Jónssonar, formanns KÍ, sem flutti kraftmikla ræðu þar sem hann ræddi þjóðfélagsmál almennt og málefni kennara sérstaklega. Varaði Eiríkur mjög eindregið við einkavæðingarstefnunni og vék hann sérstaklega að heilbrigðiskerfinu í því efni. Við svipaðan tón kvað í ræðum erlendra gesta. Ég flutti þinginu ávarp og færði þingfulltrúum kveðjur stjórnar BSRB...Minntist ég föður míns, Jónasar B. Jónssonar, en hann var heiðursfélagi í Kennarasambandi Íslands og hefði orðið hundrað ára 8. apríl ef hann hefði lifað...

8. Apríl 2008

FAGRA ÍSLAND - DAGUR SEX

Birtist í Fréttablaðinu 07.04.08.
FB logo..Síðan gerist það á fimmtudaginn í síðustu viku að upp rennur enn einn dagurinn í svikasögu Samfylkingarinnar í umhverfismálum. Þá hafnar umhverfisráðherra kæru Landverndar vegna álverksmiðju í Helguvík. Umhverfisráðherra kvað sína eigin ákvörðun um að hafna kærunni ekki vera sér að skapi. En svona væri þetta bara, hún gæti hugsað sér að breyta stjórnarskránni. En hvernig væri að reyna að breyta stefnu ríkisstjórnar sem Samfylkingin á aðild að og standa þannig við þau fyrirheit sem kjósendum voru gefin fyrir ...

8. Apríl 2008

HVERS KONAR JAFNAÐAR-MENNSKA?

Ég fylgdist með umræðunni um einkaþotuleigu ríkisstjórnarinnar á Alþingi og kom það mér óneitanlega á óvart af hve mikilli heift forsætisráðherrann varði ráðslag ríkisstjórnarinnar. En látum það vera með Íhaldið. Það er samt við sig í spillingunni. En hvað með þennan guðsvolaða flokk sem kallar sig Jafnaðarmannaflokk Íslands? Finnst mannskapnum þar allt í góðu lagi að láta almenning ...
Jóel A.

8. Apríl 2008

Á LEIÐ Á FUND?


...Samkrullið við fjölmiðlana sem forsætisráðherra stærði sig af á Alþingi er í sjálfu sér umhugsunarvert.  Þegar ríkisstjórn í einu landi er farin að efna til auglýsingaferða eins og þau Geir og Ingibjörg Sólrún hafa staðið fyrir að undanförnu með fjölmiðla upp á sína náð og miskunn þá er ástæða til að staldra við. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, ætti að vara sig á hrokafullum viðbrögðum af því tagi sem hann sýndi í þinginu. Auðvitað gerir hvert mannsbarn sér ljóst að í því felst tímasparnaður - og í þeim skilningi hagræði  -  að stíga upp í einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli í stað þess að ferðast með áætlunarflugi frá Keflavík þegar haldið er til útlanda. Þetta gildir hins vegar um okkur öll, ekki bara...

7. Apríl 2008

Drífa Snædal skrifar: GRÆNA HAGKERFIÐ AÐ HÆTTI SAM-FYLKINGAR-INNAR?

...Um svipað leyti og þetta allt gerist ferðast ráðherrar Samfylkingarinnar með eins mengandi hætti og mögulegur er á milli landa - í einkaflugvélum. Er það græna hagkerfið í framkvæmd? Varla. Er Samfylkingin ekki að misskilja eitthvað? Nú er ég þess fullviss að margir umhverfisverndarsinnar hafi greitt Samfylkingunni atkvæði sitt vegna Fagra Íslands. Stefnan hljómaði vel og málsvarar hennar voru sannfærandi. Sömu málsvarar tala af sama krafti í dag um umhverfisstefnu Samfylkingarinnar en orðin falla dauð. Hversu...

7. Apríl 2008

ER RÍKISSTJÓRNIN AÐ ÖGRA ÞJÓÐINNI?


Fram kemur í fréttum í dag að forsætisráðherra og viðskiptaráðherra séu á leið til útlanda - í einkaþotu. Fyrir nokkrum dögum var það gagnrýnt harðlega þegar oddvitar ríkisstjórnarflokkanna héldu ásamt föruneyti sínu til Búkarest í Rúmeníu á NATÓ fund í einkaþotu. Þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún sögðust vera að spara tíma. Í þessum ferðmamáta væri einnig fólgið hagræði. Ekki efa ég að svo sé. Það vill hins vegar svo til að þetta myndi eiga við um okkur öll. Það er nefnilega auðveldara og þægilegra að ferðast til útlanda í einkaþotu en að gera einsog við gerum flest, taka áætlunarflugvél frá Keflavík...Heyra mátti á forsætisráðherra að honum mislíkaði gagnrýnin á ferðamáta hans og utanríkisráðherrans. Hann talaði um að...

6. Apríl 2008

RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS STYÐUR AUKNA HERVÆÐINGU


...En spurning mín til ríkisstjórnarflokkanna á Íslandi, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, er hvort þeir telji það vera eftirsóknarvert framlag Íslands til heimsmálanna að leggjast á sveif með vopnaiðnaðinum og kynda undir nýtt vígbúnaðarkapphlaup? Einmitt þetta gerðu þau Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar með stuðningi sínum - fyrir Íslands hönd - við NATÓ samþykktina á nýfstöðnum fundi hernaðarbandalagsins í Búkarest...

6. Apríl 2008

NÝIR OG BETRI BANKAR: ÞJÓÐARBANKINN OG HÚSNÆÐIS-BANKINN

Legg til að Íslenska ríkið stofni ríkisbanka, sem gæti heitið til dæmis Þjóðarbankinn og undirbúi að yfirtaka skuldir íslensks almennings við glæfrabankana. Hættan sem þjóðin stendur frammi fyrir er sú að fari bankarnir á hausinn, sem sumir telja líklegt, þá má búast við bréfum frá skiptaráðanda til almennings þar sem óskað er eftir uppgreiðslu lána. Þetta gerðist í Danmörku í kringum 1990 og í Bretlandi ca. 1992. Þá fóru margir einstaklingar á hausinn og misstu húsnæðið. Ef hægt er að bregðast við ÁÐUR en þetta gerist, þá er hægt að koma í veg fyrir stórslys. Það er hægt að nota Íúðalánasjóð í ...
Hreinn Kárason

5. Apríl 2008

AÐ TAKA EINN BRÉSNEF

...Þú vaktir máls á ýmsum þáttum og sýndir fram á hvað væri að gerast. Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra stóð á gati og fulltrúar Samfylkingarinnar, litlu sálarinnar sem þú nefndir svo, tóku undir með heilbrigðisráðherranum. Myndin sem dregin var upp í fjölmiðlum var út úr öllu korti. Í einum fjölmiðli var Ellert B. Schram látinn ljúka fréttinni með því að segja að Samfylkingin myndi aldrei samþykkja einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu þótt verið væri að sýna fram á að einmitt það væri að gerast!!! Í öðrum fjölmiðli var okkur sagt að...
Haffi  

5. Apríl 2008

FUNDARÖÐ VG: TÖKUMST Á VIÐ EFNAHAGSVANDANN


...Í baráttunni við að verja lífskjör almennings lögðu Vinstri græn fram tillögur á þingi fyrir þremur vikum síðan um víðtækar ráðstafanir í efnahagsmálum. Til að kynna tillögurnar og fá umræður um þær hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð útbúið myndskeið sem vakin hefur verið athygli á hér á síðunni og hleypt af stokkunum fundaröð um allt land undir yfirskriftinni Tökum á efnahagsvandanum: Tillögur Vinstri grænna. Fundurinir eru á eftirtöldum stöðum:...

5. Apríl 2008

GEIR SKAMMAR PÚTÍN

...Þetta hefði forsætisráðherrann mátt orða á fundi þar sem Bush og allt NATÓ liðið heyrði til.  Það getur vel verið að ég hefði samþykkt að spandera í einkaþotu undir Geir á fund til að ræða mannréttindabrot Bush stjórnarinnar og hernaðarbandalagsins NATÓ. Hitt hefði Geir getað rætt við Pútín í síma.
Grímur

5. Apríl 2008

MILLJARÐAMÆRINGAR OG KREPPAN


...Ekki eins geðfelldur í viðhorfum og Soros er annar milljarðamæingur, Schwarzman að nafni. Hann nefni ég vegna skírskotunar í  málflutning hans á fréttasíðum BBC sl. fimmtudag. Schwarzman þessi efast ekki um að kreppa sé að ganga yfir og er þannig ekki maður afneitunar fremur en Soros. Schwarzman virðist hins vegar lítið gefa fyrir þjóðfélagslega ábyrgð og segir að ófarir einhverra í efnahags- og peningakerfunum opni hugkvæmu og áræðnu fólki tækifæri til stórgróða. Sannast sagna datt mér þankagangur Schwarzmans í hug þegar ég heyrði í fréttum í kvöld að ríkisstjórnin hefði í hyggu að setja lög sem heimiluðu lífeyrissjóðum að taka þátt í skortstöðubraski. Hverjir skyldu hafa setið á skrafi...

4. Apríl 2008

INGIBJÖRG, GEIR OG NATÓ

...Var þetta, sem flokkurinn aðefst nú, stuðningurinn við stríðsrekstur í Írak og Afganistan og skefjalaus undirgefni við erlenda hernaðar- og auðhyggju á kostnað íslensku þjóðarinnar - var allt þetta fyrirséð? Ef svo er þá býr þessi stjórnmálaflokkur yfir meira falsi og undirferli en ég hafði hugarflug til að ætla. Ég var í hópi þeirra sem hlustaði á formann flokksins Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, og veit um marga aðra sem vildu taka hana trúanlega. Getur verið að hún hafi alla tíð verið að bíða eftir tækifæri til að svíkja yfirlýstan málstað sinn og kjósendur sína!  Glottandi Geir er eins og hann og hans fólk er ...
Úlfur

4. Apríl 2008

AÐ LABBA REST TIL STUÐNINGS NATÓ

Já, það er merkilegt hvað fólk getur þroskast illa með aldrinum eins og fram kemur í bréfi Sunnu Söru  um gamla Keflavíkur-göngugarpinn okkar hana Ingibjörgu Sólrúnu utanríkisráðherra. En hvernig væri nú að hún gengi síðasta spölinn frá NATÓ fundinum í Búkarest - þeas. frá einkaþotunni á Reykjavíkurflugvelli og upp í ráðuneyti - svona rétt til að minna landsmenn  á mikilvægi NATÓ og framgöngu þess, m.a. í Írak og Afganistan ...
Sigurfljóð Hermannsdóttir

3. Apríl 2008

SAMRÁÐ Í ANDA BRÉSNEFS

 
Í tíu-fréttum Sjónvarps í kvöld sátu Rúmeníu-fararnir okkar, Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, sem nú sækja fund NATÓ í Búkarest, fyrir svörum fréttamanna, samferðamanna sinna úr einkaþotunni góðu. Það dugir ekki annað en fá góða „dekkun" frá Búkarest. (Mér er reyndar sagt að fréttamaður Sjónvarps hafi komið frá London og fyrir vikið misst af því að kynnast ferðamáta hefðarfólksins úr Stjórnarráði Íslands). Hvað um það, fréttamannafundurinn, sem virtist haldinn á...

3. Apríl 2008

Í EINKAÞOTU TIL AÐ HEIÐRA NATÓ

...En svoldið skondin fannst mér þessi tilvitnun þaðan sem barst inn á minn skjá í dag: :"Fyrir nokkrum áratugum gekk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Keflavíkurveginn á tveimur jafnfljótum til að mótmæla aðild Íslands að NATO. Í gær sparaði hún sér ferðina suður eftir og...
Sunna Sara

3. Apríl 2008

RÁÐLEGGINGAR UVG


Ung Vinstri-græn hafa útbúið bækling og sent hann með hraðpósti til forsætis- og utanríkisráðherra á NATÓ-fundinn í Rúmeníu þar sem þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttur og Geir H. Haarde eru nú. Þar er að finna leiðbeiningar um það hvernig ráðherrarnir geta komist heim frá Rúmeníu án einkaþotu. Sem kunnugt er létu þau Geir og Ingibjörg Sólrún skattborgarann leigja undir sig og föruneyti sitt einkaþotu til að geta ferðast með stæl til NATO-fundarins. Með í för voru fulltrúar fjölmiðla til að geta þjónað ráðherrunum. Þjóðinni hefur blöskrað flottræfislháttur ríkisstjórnarparsins og segir Auður Lilja Erlengsdóttir formaður UVG á ...

3. Apríl 2008

GEIR Á HÁU PLANI

...Svona lítum við semsagt út, íslenskur almeninngur, séð úr háloftunum, úr þrjátíu þúsund fetum í einkaþotu - þaðan séð erum við náttúrlega á mjög "lágu plani". Þau Geir og Ingibjörg þá væntanlega á háu plani. Spurning hve lengi við nennum að borga undir þennan mannskap sem talar af slíkum hroka til þjóðar sinnar.
Haffi

2. Apríl 2008

....OG Í EINKAÞOTU


Í dag héldu oddvitar ríkisstjórnarflokkanna Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar til Búkarest. Tilefnið er að sækja fund í hernaðarbandalaginu NATÓ. Almennt hélt ég að þau hefðu öðrum hnöppum að hneppa en sitja saman fundi um málefni NATÓ. Enginn velkist í vafa um að íslenska þjóðarbúið stendur frammi fyrir alvarlegum erfiðleikum og mikilvægt er að skapa samstöðu um aðgerðir því til varnar. Í því samhengi horfir fólk ekki aðeins til þess sem ríkisstjórnin aðhefst, eða lætur hjá líða að aðhafast eftir atvikum, heldur er líka horft til merkjasendinga úr Stjórnarráðinu. Á undanförnum árum hefur ...

2. Apríl 2008

BÆNDASAMTÖKIN GRUNUÐ UM AÐ STARFA FYRIR BÆNDUR!

Birtist í Fréttablaðinu 01.04.08.
FB logo
Samkeppnisstofnun hefur minnt á sig. Hinn 7. mars síðastliðinn birtist frétt í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni, „Sátt um hækkanir nauðsynleg".  Hér var vísað til hækkunar á mjólkurverði sem þá var til umræðu. Og Bændasamtökin vildu samkvæmt Morgunblaðinu sátt um verðhækkanir. Samkeppnisstofnun þótti nú mælirinn fullur og hefur óskað eftir því að fá í hendur afrit af þingskjölum og fundargerðum nýafstaðins búnaðarþings svo og samþykktir og ályktanir, minnisblöð og tölvupóstar sem ritaðir hafa verið eftir 1. september á síðasta ári!
Í yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins í tilefni af frétt Morgunblaðsins þar sem hvatt er til sátta um verðbreytingar segir m.a. ...

2. Apríl 2008

FORÐUMST ALHÆFINGAR

Birtist í Morgunblaðinu 01.04.08.

...Ástæðan fyrir því að BSRB ákvað að standa að þessari hækkun er í fyrsta lagi sú að samtökin hafa sannfærst um að kúabændur myndu upp til hópa lenda í verulegum hremmingum ef ekki yrði komið til móts við óskir þeirra og væri það í hæsta máta óábyrgt að tefla afkomu þessa mikilvæga atvinnuvegar í tvísýnu. Í annan stað má ekki gleyma því að bændur geta ekki farið líkt að og ýmsir aðrir sem stýra verði á vöru sinni eða þjónustu og ákveðið verðlagið einhliða. Sannast sagna er ástæða til að ætla að sveiflur á heimsmarkaðsverði eða gengissveiflur hafi iðulega ekki skilað sér í lægra vöruverði þegar þær hafa verið neytendum í hag þótt

2. Apríl 2008

Finnur Dellsén skrifar: FRIÐÞÆGING SAMFYLKING-ARINNAR

...Þetta er ekki bara orðhengilsháttur því Lúðvík veit hvað hann er að segja. Ungir jafnaðarmenn eru orðin friðþæging Samfylkingarinnar þegar flokkurinn svíkur loforð sín við kjósendur. Ef ráðherrar flokksins vilja virkja í Þjórsá, reisa álver eða styðja glórulausar embættisveitingar eru ungliðarnir sjálfkrafa dregnir fram til að sýna að ráðherrarnir séu í það minnsta að gera það gegn vilja sínum. Málunum er þannig drepið á dreif með því að endurskilgreina ágreininginn sem muninn á afstöðu þeirra sem hafa valdið, lentu kannski í því gegn vilja sínum, og svo þeirra sem eru frjálsir til að láta samviskuna ráða för. Í seinni hópnum eru...

1. Apríl 2008

LÍFEYRIR Í HÚFI

Er það ekki verkefni stjórnmála að fjalla um kerfi sem leyfir að menn verði milljarðamæringar á því að valda þjóðfélagslegum skaða? Ríkisstjórnin ætti að vera fjalla um kerfið um stjórnmálin, en er að fjalla um daglegar reddingar. Nú þarf að leyfa bönkum að fara hausinn og þjóðnýta restarnar. Ef þetta er gert núna, þá er hægt að ...
Hreinn Kárason

1. Apríl 2008

NÝBREYTNI VG


...Þannig lætur flokkurinn ekki við það eitt sitja að efna til fundaraðar víðs vegar um landið á næstunni til að kynna áherslur sínar í efnahagsmálum heldur er einnig hægt að fá forsmekkinn af fundunum með því að hlýða á mál formanns flokksins í þar til gerðu sjónvarpsávarpi. Með því að smella á slóðina sem hér fylgir má heyra og sjá ávarp Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG þar sem hann ....

31. Mars 2008

FUNDUR Í DAG: GEGN MANNRÉTTINDABROTUM Í TÍBET


...Hópur fólks hefur að undanförnu beitt sér gegn mannréttindabrotum í Tíbet og þá jafnframt í þágu mannréttindanna. Ég vil vekja sérstaka athygli á fundi sem í dag verður haldinn við kínverska sendiráðið en í kjölfar hans verður fulltrúum ríkisstjórnarinnar afhent hvatning um að taka afdráttarlausa afstöðu í þágu mannréttinda í Tíbet. Eftirfarandi tilkynningu sendi baráttuhópurinn frá sér í dag....

30. Mars 2008

KEPPNI UPP Á LÍF OG DAUÐA - EÐA VERA MEÐ Í LEIK?


Róðrakeppnin á milli ensku háskólanna í Oxford og Cambridge á sér langa sögu, allt aftur á öndverða 19. öld. Í báðum þessum fornu háskólabæjum er fjöldi sjálfstæðra háskóla eða háskólagarða, colleges, einsog þeir  kallast á ensku þótt allir flokkist þeir undir Oxford eða Cambridge háskóla eftir atvikum.  Þessir garðar keppa sín í milli en mynda síðan sameiginlegt lið sem stefnt er gegn hinum háskólabænum. Að þeirri keppni varð ég vitni fyrir réttri viku, á páskadag, í smábænum Henley sem stendur á bökkum árinnar Thames. Að þessu sinni voru það kvennalið háskólabæjanna sem öttu kappi hvort við annað. Hvers vegna skyldi ég vera með hugann við róðrakeppni háskólanna í Oxford og Cambridge...?

30. Mars 2008

SKRUM & OKUR

Það er rétt hjá Eddu á síðunni þinni að það er bæði beinlínis og óbeinlínis verið að OKRA á íslenskum almenningi, á svívirðilegan hátt, án þess að dónarnir skammist sín!
Ég veit að Alþýðusambandið hafði verið að myndast við að tína vörur í körfur og upplýsa hvað hver okraði í það og það skiptið.  Síðan komst upp að verslanirnar sem erindrekar ASÍ heimsóttu, vissu hvenær þeir kæmu í heimsókn, sem gaf viðkomandi verslunum tækifæri til að hagræða verði og vöru sem gerði samanburðinn þeim hagstæðan. Þá skilst mér að ...
Úlfur

30. Mars 2008

HAGKAUPSOKUR

Hagkaup er okurstofnun. Hef farið nokkrum sinnum síðustu daga í þrjár verslanir þessarar Baugsstofnunar og keypt fjóra hluti þar, einn og einn í einu.Í öll skiftin bar ekki saman hilluverði og kassa og munaði sumsstaðar miklu. Það eru alltaf þessar verðbreytingar, var sama svarið við kassann, engin afsökun. Þetta er sérgrein Finns. Hefði ég keypt fleira í þessi ...
Edda

29. Mars 2008

HEILSUVERND MEÐ RÉTTU BANKAKORTI


...En boðskapurinn og viðhorfin eru hin sömu. Og nú spyr Þjóðviljaritsjórinn gamli um „Heilsuvernd með réttu bankakorti."  Hann víkur þar sérstaklega að Heilsuverndarstöðinni ehf og samningi sem þetta nýja fyrirtæki hefur gert við Kaupþing á sviði heilbrigðisþjónustu. Helgi Guðmundsson sýnir einkarekstrar/einkavæðingartilburðum ívið meira umburðarlyndi en ég geri - þó er ég síður en svo andvígur öllum einkarekstri innan heilbrigðisþjónustunnar einsog margoft hefur komið fram - en nú er honum nóg boðið. Ég birti ...

28. Mars 2008

AF HVERJU AFNEMUR HAGKAUP EKKI ÁLAGNINGU Á VÖRUR?


Sífellt heyrum við og sjáum auglýsingar frá Hagkaupum þar sem mælst er til þess að ríkið afnemi virðisaukaskatt af söluvarningi sem verslunarkeðjan hefur á boðstólum. Hvatningin er að vísu óbein því okkur er sagt að Hakaup felli niður úr vöruverðinu hinn illa virðisaukaskatt  til að sýna okkur viðskiptavinunum fram á hve mikil kjarabót það væri að losna við þessar álögur ríkisins. Ef ég hefði rúm fjárráð gæti ég vel hugsað mér að skjóta inn nokkrum auglýsingum með hvatningu um að Hagkaup færi aðra leið og ...

26. Mars 2008

HVAR ENDAR „MANNRÉTTINDABARÁTTA" ÞÓRHALLS?


...Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við börðumst mörg hver gegn því að Ríkisútvarpið, stofnun sem er rekin með lögþvinguðum greiðslum frá þjóðfélagsþegnunum - okkur öllum - yrði tekin út úr þessu lagaumhverfi. Spurningin sem Þórhallur vill láta reyna á er hvort ekki hafi verið gengið nægilega langt í lagabreytingunum til þess að hann sleppi fyrir horn. Ekki veit ég hvort stjórnendur RÚV ohf hafa hugsað þessi mál alveg til enda. Þannig er hætt við að sú spurning gerist áleitin hvort greiðendur afnotagjalda séu tilbúnir að borga gjöld til stofnunar sem neitar að upplýsa hvernig fjármunum þeirra er varið...

25. Mars 2008

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar: SATT OG LOGIÐ

...En í svalli doðans þá rúllar bara allt eins og vanalega, rétt eins og ekkert hafi í skorist, einkavæðing er ekki einkavæðing, stóriðja er ekki stóriðja, ríkisstjórn er ekki ríkisstjórn. Það sem miður fer er víst Seðlabankanum að kenna eða mörkuðum í henni Ameríku, nú eða þá bara því að við erum ekki enn búin að drattast inn í ESB. Bannsett krónan, allt henni að kenna. En hverju og hverjum er í raun um að kenna ef Þjórsá og öðrum náttúruperlum er fórnað fyrir fullt og allt...?

24. Mars 2008

VANGAVELTUR UM VERÐLAG OG SAMFÉLAGSLEGA ÁBYRGÐ


Gengissveiflur síðustu daga hafa veitt nokkra innsýn í verslun og viðskipti. Ekki að það þurfi að koma á óvart að gengi krónunnar hafi áhrif á vöruverð heldur er hitt umhugsunarvert með hvaða hætti það gerist. Ekki voru liðnir tveir dagar frá falli krónunnar en blöðin birtu flennifyrirsagnir um að holskefla hækkana væri skollin á þjóðinni... Það verður að segjast einsog er, að rökin hætta að vera sannfærandi þegar þau eru alltaf neytandanum í óhag. Er til of mikils mælst að þeir sem annast innkaupin erlendis frá og stunda verslun og viðskipti sýni að nú sé tími til að draga ögn úr...

23. Mars 2008

ÞRÍR KRATAR – EÐA FJÓRIR?

Ég var að hlusta á Hallgrím Thorsteinsson  og viðmælendur hans í þættinum Í vikulokin.  Einn viðmælenda var Benedikt Jóhannesson, nýskipaður stjórnarformaður nýrrar innkaupastofnunar í heilbrigðiskerfinu; stofnunar sem hefur verið afar umdeild, meðal annars af þinni hálfu Ögmundur. Benedikt dóseraði lengi um viðskiptavinina í heilbrigðiskerfinu. Mér skilst að hann hafi átt við sjúklinga. Kauphallarstjórinn, Þórður,  sem einnig var í þættinum,  tók undir með...
Jóel A.

23. Mars 2008

ÞJÓÐHAGS-STOFNUN VAR ÞJÓNUSTU-STOFNUN VALDSINS

Ég hlustaði á útvarpsþáttinn Í vikulokin í dag. þar voru flestir þátttakendur að  mæra gömlu Þjóðhagsstofnunina, hún hefði verið svo fagleg og hlutlaus. Einn þátttakenda var fyrrum forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Ég man ekki betur en Þjóðhagsstofnun hafi alltaf verið þjónustustofnun við ríkisvaldið og ríkjandi öfl. Undirbjó alltaf kjarasamninga með endalausu væli og bölsýnistali. Stofnunin var síðan lögð niður í einhverju kasti Davíðs Oddssonar. Ekki ætla ég að réttlæta það.  Hinu vil ég halda til haga og það er...
Haffi

23. Mars 2008

SAMFYLKING GREFUR UNDAN ÍSLENSKUM EFNAHAG

...Hvað skyldi kjósendum sem kusu Samfylkinguna finnast um mannskapinn sem það kaus? Var meiningin að kjósa þessa rispuðu grammofónplötu inn í Stjórnarráðið sem er aldrei í öðru fari en því sem segir að allt verði gott ef við göngum í Evrópusambandið og tökum upp evru? Ég spyr: Eigum við Íslendingar ekki að losa okkur við þetta hugmyndasnauða barlómslið og ...
Grímur

23. Mars 2008

SAMRÆÐA FYRIR SAMFÉLAG

Var að lesa ræðu séra Gunnars Kristjánssonar, sem þú birtir hér á síðunni. Mannúðin er undurfalleg þegar hún er sönn og hrein. Að skrifa og hugsa svona er náðargáfa. Mikið gagn hefði samfélagið af samræðu sem þessari - lágværri, hlýrri og fordómalausri - en því miður heyrum við minnst af því sem ...
Þorleifur

23. Mars 2008

KVEÐJUR Á PÁSKUM


Í mínum huga eru páskar skemmtilegur tími. Almennt er fólk í fríi frá vinnu. Ekki má þó gleyma öllum þeim sem þurfa að standa vaktina fyrir okkur og ekkert fá fríið, hjúkrunarfólkið, löggæslan að ógleymdu verslunarfólkinu sem gert að standa sífellt lengri vaktir. Ég hef oft velt því fyrir mér...

22. Mars 2008

ÞURFUM VALKOST VIÐ "FRJÁLSA" FJÖLMIÐLA AUÐVALDSINS!

...Auðvitað ber verkalýðshreyfingunni og félagshyggjuþenkjandi stjórnmálamönnum hreinlega skylda til að spyrna við ofbeldi auðvaldsins, með heiðarlegum og vel reknum fjölmiðlum.  Hvernig má almenningur í landinu annars treysta því að sannleikurinn sé á borð borinn og vakað sé yfir hagsmunum hans? Ber umræddum félagshyggjuöflum ekki skylda til að leita fjár til fjármögnunar á stofnun og frumrekstri kröftugra fjölmiðla í landinu, sem síðar meir kæmu til með að borga sig? Verður ekki að ráða færasta fólk til að hrinda þessu í framkvæmd og síðan ...
Úlfur 

22. Mars 2008

AÐ KOMA LÍFSREYNSLU TIL SKILA


Séra Gunnar Kristjánsson, prestur á Reynivöllum í Kjós,  messaði í Brautarholtskirkju á föstudaginn langa og var predikun hans útvarpað. Í mínum huga er ætið gefandi að hlýða á séra Gunnar, enda er hann frábær greinandi, með listrænt og heimspekilegt innsæi og mikla sögulega yfirsýn. Í predikun sinni kom séra Gunnar inn á umræðu innan kirkjunnar um hvaða sýn hún ætti að leggja áherslu á - bjartsýni eða þjáningu -  og fléttaði hann inn frásögn af...

21. Mars 2008

MÓTMÆLUM MANNRÉTTINDABROTUM Í TÍBET


...Ég hef hvatt íslensk stjórnvöld til að bregðast við og fyrir hönd þingflokks VG hef ég óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd Alþingis um málið. Til þess fundar hefur ekki enn verið boðað. Oft læðist að mér sá grunur að íslensk stjórnvöld geri einvörðungu það sem þau telja borga sig hverju sinni. Það á vissulega við um fleiri... Að mínum dómi er útilokað að verja ógnarstjórn og ofbeldi sem kínversk yfirvöld eru nú uppvís að - og hafa lengi verið - gagnvart landsmönnum. Meðfylgjandi er fréttatilkynning um mótmælafund við kínverska sendiráðið laugardaginn 22. mars klukkan 13.

20. Mars 2008

UTANGARÐS-GEIR OG FERÐALANGUR Á VEGUM SKATT-BORGARANS

Ég á sannast sagna engin orð yfir ráðamönnum þjóðarinnar. Lánin mín æða upp á við með vísitölubundinni verðbólgu! Við þessar aðstæður mætir forsætisráðherrann, Geir með bleikt bindi í Stjórnarráðið og hikstar því upp við fjölmiðla að við eigum bara að vera glöð og halla okkur aftur á bak í áhorfendastúkunni. Á sama tíma eyðir Ingibjörg Sólrún milljónatugum af skattfé okkar  í auglýsingaferð fyrir sjálfa sig til ...
Grimur

20. Mars 2008

HÚSBÆNDUR OG HJÚ


...Samkomulag þingskapameirihlutans byggði ekki á þessu. Það byggði á því að búa til fyrirkomulagið „húsbændur og hjú", starfsmenn einstakra þingmanna. Undir lok umræðunnar um þetta makalausa frumvarp var því lýst yfir af hálfu stjórnenda Alþingis að stefnt skyldi að því að skapa öllum þingmönnum þjónustufólk af þessu tagi!  
Skyldu skattgreiðendur hafa heyrt þessa yfirlýsingu? Mér brá þegar ég heyrði hana og þá ekki síður þegar ég sá vinnuskjöl sem þessu tengdust þar sem hugtakinu húsbóndavald brá fyrir. Fyrst hélt ég að það væri missýn. Svo reyndist ekki vera. Þá varð mér líka ljóst hvað orðið afturhald þýðir. Verra þótti mér að hugsa til þess að afturhaldið væri allsráðandi á Alþingi í dögun 21. aldarinnar.Ástæðan fyrir því að ég ákvað sem ungur maður að beita mér í verkalýðsbaráttunni var til að berjast gegn þessari hugsun. Nákvæmlega þessari ...

...

19. Mars 2008

KRÓNAN, BANKARNIR, PEARL HARBOUR, SAMFYLKINGIN OG...

Nú er svo komið sem ég af lítillæti mínu minni á að ég spáði fyrir jólin að myndi gerast eftir jólin. Að bankarnir væru að undirbúa árás á krónuna.  Nú er þessi Pearl Harbour bankanna hafin. Þetta afhjúpar þá goðsögn að bankarnir séu að einhverju leyti íslenskir. Þeir eru fyrst og fremst bankar á markaði.  Það sem verra er, er að lífeyrissjóðirnir græddu líka. Þannig að fyrst setjum við launþegann á hausinn og síðan fær hann ...
Hreinn Kárason

18. Mars 2008

BJÓÐUM DALAI LAMA VELKOMINN

Ég var að enda við að senda tölvupóst með mótmæli til kínverska sendiráðsins og varð jafnframt undrandi yfir því hvað Kínverjar hafa kúgað þjóðina í Tíbet og drepið. Ég man eftir því á sínum tíma þegar Dalai Lama flúði í útlegð. Núna eru 49 ár síðan og maður dáist af honum, hvílíkt þrek hann hefur haft í gegnum tíðina í útlegðinni um leið og sársauki hlýtur að ...
Carl Jóhann Lilliendahl

18. Mars 2008

TRÚIR EKKI FRÉTTAFLUTNINGI FRÁ TÍBET

Mér finnst hann nú skelfing hæpinn, boðskapurinn um góðu andófsmennina í Tíbet og vondu kommana í Kína. Ég man ekki betur en að "uppreisn" Tíbeta hafi á sínum tíma komið upp vegna áforma stjórnvalda í Kína að taka nokkurt landssvæði af tíbeska aðlinum og afhenda fátækum bændum og leiguliðum. Svo minnir mig einnig að CIA hafi átt stóran þátt í að hrinda uppreisninni af stað...
Torfi Stefánssoon

18. Mars 2008

VARAÞINGMAÐUR Á HVÍTUM SLOPPI


Skyldi vera eitthvað í Codex edicus læknanna  um það hvenær sé við hæfi að koma fram í hvítum læknasloppi í pólitísku viðtali og þá hvenær rétt sé að láta sloppinn hanga á snaganum? Að sumu leyti hefði mér fundist heiðarlegra af Þorvaldi Ingvarssyni, 1.varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins í N-austurkjördæmi að klæðast jakkafötum, jafnvel teinóttum, í fréttaviðtali við Sjónvarpið í kvöld þegar hann talaði fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum... Þorvaldur fór á nokkuð lipran hátt með stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að fjármagn skuli fylgja sjúklingi og nú þurfi að búa í haginn fyrir samkeppni. Ég náði þessu að vísu ekki alveg hjá honum með samkeppnina við útlönd. Sjálfum finnst mér þetta snúa meira...

18. Mars 2008

EFNAHAGSÖNGÞVEITIÐ: AÐGERÐALAUS GEIR OG ISG Í AFGANISTAN


...En hvað gerir ríkisstjórn Íslands? Oddviti annars stjórnarflokksins , forsætisráðherrann, segir að ekkert sé við þessu ástandi að gera.  Geir H. Haarde, kom fram í fjölmiðlum í dag til að segja þjóðinni að halda sig með ríkisstjórninni á áhorfendabekkjunum og bíða átekta. Verum bara róleg, sagði Geir forsætisráðherra.  Oddviti hins stjórnarflokksins, utanríkisráðherrann, er ennþá fámálli, enda vart við öðru að búast því Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er vant við látin í norðanverðu Afganistan ...Það er við þessar aðstæður sem bankastjóri Landsbankans kvaddi sér hlóðs...

17. Mars 2008

FYLGJUMST MEÐ TÍBET

Tibet 3
Birgitta Jónsdóttir, skáldkona, skrifar umhugsunarverða grein hér á síðuna í dag um Tíbet og það ofbeldi sem kínverska hernámsliðið beitir landsmenn þar. Hér fyrr á tíð fór ætíð minna fyrir mótmælum gegn ofríki og ofbeldi kínverskra stjórnvalda gagnvart þegnunum en gegn hinum  sovésku Kremlverjum...Hvað gæti hafa valdið þessu? Það er auglóst mál: Hernaðarlegir og efnahagslegir hagsmunir ...Nú borgar sig hins vegar að hafa kínversk stjórnvöld góð, enda sjá þau vestrænum kapitalistum fyrir stærstu þrælakistu heimsins. Til er fólk sem hugsar á annan veg. Það gerir Birgitta Jónsdóttir, skáldkona. Hún spyr ekki hvenær það borgi sig að berjast fyrir mannréttindum. Hún - að eigin frumkvæði og ein á báti - stendur fyrir mótmælum  við kínverska sendiráðið í dag klukkan 17 til að hvetja okkur til samstöðu með Tíbetum og mótmæla ofbeldinu sem...

17. Mars 2008

Birgitta Jónsdóttir skrifar: HVER Á TÍBET?

...Tíbetar reyndu að verjast innrásinni en þetta var herlaus þjóð og vopnin þeirra ákaflega frumstæð miðað við það sem her Kínverja hafði yfir að ráða. Innrásin var barnaleikur og árið 1959 þegar Tíbetar reyndu uppreisn var hún fljótt barin niður og þeim var slátrað án miskunnar. Dalai Lama tókst að flýja ásamt 100.000 öðrum Tíbetum. Meira en hálf milljón Tíbeta hafa verið myrtir síðan innrásin hófst og varla er til sú fjölskylda í Tíbet sem hefur ekki misst vini og ættingja í blóðbaðinu. Kínverjar innlimuðu Tíbet sem hérað í Kína og hafa síðan þá markvisst reynt að eyða menningu Tíbeta. Þeir brenndu bækur, þeir brenndu hofin, þeir brenndu bænaflöggin þeirra. Kínverjar þvinguðu Tíbeta til að ...

17. Mars 2008

BEÐIÐ EFTIR HEITASTA PARINU

...Gaman var að heyra hvað Ásta R. og Kristinn H. höfðu góðan skilning á þessu í umræðunni á Alþingi: Skamm, þið hafið verið að slugsa læknaritarar og líka þið sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar á Landakoti. Nú er bara að sjá til þess að heitasta parið taki yfir, Hannes Hólmsteinn og Margrét Pála. Vant fólk, vönduð vinna.  Eftir hverju er verið að bíða? Læknaritararnir á LSH og hjúkrunarfólkið á Landakoti hefur greinilega verið handónýtt. Áfram...
Sunna Sara

16. Mars 2008

VG EINN FLOKKA UM VELFERÐINA

Ég hlustaði á ykkur Ágúst Ólaf Ágústsson, varaformann Samfylkingarinnar, í Endurvinnslunni, útvarpsþætti Ævars Arnar Jósepssonar, í dag. Ef Ágúst Ólafur er dæmigerður fyrir forystu Samfylkingarinnar þá verð ég að segja að Samfylkingin á að hætta að kalla sig félagshyggjuflokk! Reyndar hefur Ágúst Ólafur verið býsna heiðarlegur í sinni frjálshyggju. En getur verið að Samfylkingarfólk vilji láta tala fyrir sína hönd eins og varaformaðurinn gerði í dag? Vilja kjósendur Samfylkingarinnar láta einkavæða heilbrigðiskerfið, rústa landbúnaðinn og vilja þessir kjósendur láta gefa meira fyrir Evrópusambandsaðild en atvinnustig...
Haffi

16. Mars 2008

VÆRUKÆRIR FJÖLMIÐLAR SVÆFA SAMFÉLAGIÐ


...Það á að verða öllu hugsandi fólki umhugsunarefni þegar starfsfólki er vikið úr starfi fyrir að bera fyrir brjósti hag þeirrar starfsemi sem því er treyst fyrir. Einnig hljótum við að íhuga værukærð fjölmiðla. Með einstaka heiðvirðum undantekningum virðast þeir varla rumska frammi fyrir ofbeldi af þessu tagi. Værukærir fjölmiðlar svæfa samfélagið. Í sofandi samfélagi viðgengst síðan einræðiskennd framkoma. Hana eigum við að forðast eins og heitan eldinn því slíkt stjórnarfar drepur allt í dróma. Í þjóðfélagi sem er í gerjun einsog okkar, er þörf á víðtækri, opinni og lýðræðislegri umræðu. Núverandi ríkisstjórn ...

16. Mars 2008

UM VAFASAMA EINKAVÆÐINGU OG HAGSMUNI ÍSLANDS

...Svo er mál með vexti, að einkafyrirtæki þar, sem hefur það verkefni með höndum að bólusetja fólk og taka blóðprufur úr því, var staðið að því að nota sömu nálarnar aftur og aftur, í stað þess að nota ætíð nýjar innpakkaðar sótthreinar nálar eins og lög segja til um.  Eins og gengur og gerist í þessum einkavæðingar- villimannaheimi einkagræðginnar, þá ver umrætt fyrirtæki lægstbjóðandi í verkið ...
Úlfur

16. Mars 2008

RITSTJÓRI 24 STUNDA, GEYSIR OG ÞJÓÐMINJASAFNIÐ


...Þetta er mín niðurstaða, ekki ritstjórans. Hann vekur hins vegar athygli á sjónarmiði sem vert er að gaumgæfa.  Á 19. öldinni og eftir því sem leið á þá 20. fögnuðu félagslega þenkjandi menn því þegar samfélagsrýmið var stækkað, almenningur fékk aðgang að almenningsgörðum og síðar söfnum  án endurgjalds. Listasöfn og önnur söfn urðu öllum opin og hefur því verið haldið fram með tilvísun í rannsóknir og reynslu að beint samhengi sé á milli gjaldtöku og heimsókna: Því minni gjöld, þeim mun betri nýting. Þess vegna segi ég, Geysir verði okkar allra, líka Þjóðminjasafnið - án endurgjalds....

15. Mars 2008

HVERS VEGNA FÓRU FORSETINN OG ÞOTULIÐIÐ EKKI TIL TÍBET?

Mikið þótt mér gott þegar Björk okkar tók undir með baráttufólkifnu sem berst fyrir sjálfstæði Tíbet.s - og geldur nú umvörpum með lífi sínu.... Um Afganistan-reisu Ingibjargar Sólrúnar get ég varla rætt; til þvílíkrar hneysu þykir mér sú för vera. Reynadar finnst mér ferðaflandrið á forsetanum stundum ...
Ari

15. Mars 2008

GUÐLAUGUR ÞÓR „PRÍVAT OG PERSÓNULEGA"


Guðlaugur Þór þórðrson, heilbrigðisráðherra, sagði, í kvöldfréttum RÚV, að það væri út í hött að fótur væri fyrir þeim ásökunum þingflokks VG um að hann hefði hafnað því að taka umræðu um málefni Landspítalans í utandagskrárumræðu á Alþingi. Sagði hann það að vísu rétt að ég hefði nefnt þetta við sig „prívat og persónulega" en að öðru leyti væru ásakanir þingflokks VG fráleitar......Þetta kallar Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, að ég hafi „prívat og persónulega" óskað eftir ...

15. Mars 2008

VG ÁLYKTAR - ÁSTA RANGFÆRIR


...Athygli vakti að Ásta Möller, formaður Heilbrigðisnefndar kvaðst ekki getað svarað þessari spurningu!!! Deginum ljósara er að brottvikning Magnúsar er af pólitískum toga, því allir ljúka lofsorði á hann sem óvenju hæfan embættismann.  „Glæpur" hans er að neita að gerast viljalaust verkfæri einkavæðingarráðherrans.  Að baki pólitískum ákvörðunum á að vera pólitísk ábyrgð. Þá ábyrgð neitar Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra ,að axla. Í vikunni neitaði hann að ...

15. Mars 2008

ÖLL Á TORGIÐ AÐ MÓTMÆLA HERNÁMI ÍRAKS!


...Spurning hvort kalla eigi þetta stríð. Um er að ræða hernám annars  vegar og síðan andspyrnu gegn því. Ömurlegt er að vita til þess að íslensk stjórnvöld skuli hafa lagst í duftið fyrir hið árásargjarna herveldi, Bandaríkin. Þyngra en tárum taki er að Samfylkingin með formann þess flokks í broddi fylkingar,Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, skuli ganga eins langt og raun ber vitni í þjónkun við Bush-stjórnina bandarísku.
Vesöld Samfylkingarinnar virðist ekki ...

14. Mars 2008

HVAÐ KOSTAR ÞAÐ AÐ MEIÐA FÓLK?

Birtist í Fréttablaðinu 13.03.08.
Frettablaðið...Af málskjölum að dæma  virðist vefsíða  Ómars  hafa verið nokkuð  glæfraleg  á köflum,  óspart dylgjað um pólitíska andstæðinga og stundum gróflega snúið út úr orðum þeirra.  Því fer fjarri að Ó.R.V.  sé saklaus af pólitískum leðjuslag.  Þrátt fyrir þetta samhengi hlutanna  lætur dómarinn sér  ekki nægja að dæma áburðinn um rasisma ómerkan heldur á Gaukur Úlfarsson að punga út með 300.000 þúsund krónur í miskabætur og 500.000 kr.  fyrir málskostnaði...Þetta þýðir að menn  skuli gæta orða sinna á hinum pólitíska vígvelli, annars skuli þeir hafa verra af. Ef þú hins vegar ert kona og þér er misþyrmt þannig að þú bíður verulegan skaða er til einskis að leita til dómstóla um miskabætur. Í hugum kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi er reyndar svo komið að dómstólaleiðin er slík þrautaganga að aðeins lítill hluti þeirra kærir ofbeldið...

14. Mars 2008

ÞAU BERA ÖLL ÁBYRGÐ


...Nú veit ég ekkert hvar í flokki þessir tveir menn eru, gætu þess vegna verið stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar. Innan allra flokka er að finna fólk með félagslegar áherslur. Hinar pólitísku hreinsanir sem nú eru greinilega hafnar byggja ekki á flokksskírteinum heldur skoðunum á einkavæðingunni . Aumt er hlutskipti Þögla félagans, Silent partner, en svo er Samfylkingin nú nefnd í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. Það er vegna þess að hún  ...

13. Mars 2008

Einar Ólafsson skrifar: ÚTIFUNDUR GEGN ÍRAKS-STRÍÐINU Á INGÓLFS-TORGI 15. MARS KL. 13

Það var aðfararnótt 20. mars 2003, upp úr klukkan hálf þrjú að íslenskum tíma, sem þrjúhundruð þúsund manna herlið, aðallega frá Bandaríkjunum og Bretlandi ásamt fámennum hersveitum frá Ástralíu, Póllandi og Danmörku, réðist inn í Írak. Meðal ríkja sem studdu innrásina var Ísland. Bandaríkjamenn kölluðu þessa aðgerð „Operation Iraqi Freedom".
Í tilefni af því að fimm ár eru liðin frá innrásinni verða mótmælaaðgerðir um allan heim gegn hernámi Íraks og stríðsrekstrinum laugardaginn 15. mars og næstu daga. Í Reykjavík verður...

13. Mars 2008

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN LÆTUR TIL SKARAR SKRÍÐA


Fregnir berast nú um að einkavæðingardeild Sjálfstæðisflokksins  sé að hrinda af stað stórsókn í heilbrigðiskerfinu með víðtækum kerfisbreytingum og jafnvel hreinsunum. Félagslega þenkjandi fólki verði vikið til hliðar svo greiða megi götu pólitískra handlangara flokksins. Þótt, Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, stýri þessu að forminu til, er margt sem bendir til að í reynd sé það fjármálafólkið utan ráðuneytisins sem sé að taka yfir. Í dag kom í ljós á Alþingi að ...

12. Mars 2008

UM SKATTA-SNIÐGÖNGUMENN OG SAMNINGS-STÖÐU SKULDARA

... En þetta er ekki erindið. Ég ætla að minna á nokkuð sem þarf örugglega heilmikils undirbúnings við.
Haustið 2009 munu bankarnir væntanlega segja upp húsnæðislánunum sem þeir hófu að veita haustið 2004 með 4.15% vöxtum. Verði ekkert að gert er líklegt að mjög margar fjölskyldur lendi í miklum vanda, því horfurnar á lækkun vaxta almennt eru ekki vænlegar. Ég tel aðeins tvo aðila færa um að hlaupa undir bagga. Íbúðalánasjóð og lífeyrissjóðina. Væntanlega þarf að breyta reglum Íbúðalánasjóðs, hann hefur hingað til ekki lánað til endurfjörmögnunar en hefur ...
hágé.

12. Mars 2008

NOKKRAR ÁBENDINGAR ÚR SKAGAFIRÐI


...Ekki reyndist það viðleitninnar virði að leita til Fjármálaeftirlitsins. Langur tími leið þar til stofnunin sýndi eitthvert lífsmark svo heitið geti en virðist síðan ekki gera meiri kröfur til sjálfrar sín en svo að finna það sér helst til afreka að hafa svarað stofnfjáreigendum „skriflega"! Þetta eru sannast sagna kaldar kveðjur til fólks sem staðið hefur í strangri baráttu. Kærumál fólksins heita á kanselímáli Fjármálaeftirlitsins „ábendingar".  Eins og sjá má á netslóð er hér um að ræða langa baráttu sem háð hefur verið í fjölmiðlum og fyrir dómstólum. Ef baráttufólkið hefði viljað hagnast sjálft persónulega hefði það farið að dæmi margra annarra í svipaðri stöðu og reynt að selja hluti sína hæstbjóðenda. Því var ekki að heilsa enda á ferðinni hugsjónafólk sem er að...

11. Mars 2008

EFTIRLAUNA-FRUMVARPIÐ: HVER ER ALVARAN AÐ BAKI?

Þakka þér fyrir svarið. Ég er sammála. Það er um það bil að koma í ljós hvort þeim sem andæfa eftirlaunaósómanum er alvara eða hvort til standi að sviðsetja eitthvað til málamynda.
Ég tel að það hljóti að vera meirihluti fyrir því í allsherjarnefnd að taka frumvarp Valgerðar fyrir og afgreiða. Þar sitja
meðal annarra...
Hjörtur

11. Mars 2008

ALLYSON POLLOCK OG RANNSÓKNARMIÐSTÖÐIN Í EDINBORG


...Stofnunin heitir The Centre for International Public Health Policy. Þessari stofnun veitir forystu dr. Allyson Pollock, professor,  en hún er menntaður læknir, sem síðan hefur sérhæft sig í rannsóknum á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar...Ég átti þess kost að hitta Allyson Pollock að máli um síðustu helgi ... Hún sagði að við værum að verða vitni að geysilega umfangsmiklum þjóðfélagsbreytingum - miklu meiri en fólk almennt gerði sér grein fyrir...Þessu gerði fólk sér hins vegar ekki almennt grein fyrir enda væri þetta gert smám saman og í alls kyns dulargervi.  Sumir sem tækju þátt í ákvarðanaferlinu vissu ekki hvað þeir væru að gera á meðan aðrir væru með markmiðin skýr..

11. Mars 2008

VG UM ALLA BORG


Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur VG efnt til íbúafunda í Reykjavík um ýmis málefni undir yfirskriftinni VG um alla borg. Í kvöld klukkan 20 verður haldinn fundur í Gerðubergi í Breiðholti og er fundarefnið, Bær í borg - skiptir hverfalýðræði máli? Ég verð annar tveggja frummælenda á fundinum. Hinn frummælandinn er Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG í Reykjavík. Svandís hefur öðlast mikla reynsla í borgarpólitíkinni og kann án efa að svara spurningunni betur en ég.  Ekki má þó gleyma því að við erum ekkert síður að beina spurningunni til fundarmanna og viljum heyra þeirra sjónarmið. Einu get ég þó svarað strax..

10. Mars 2008

SKÁKVEISLA GUÐFRÍÐAR LILJU

Skákveislan sem staðið hefur yfir að undanförnu hefur gefið mér að nýju trú á að skáklistin eigi framtíðina fyrir sér. Skákin er sú íþrótt sem ég ber mesta virðingu fyrir og vel við hæfi að tala um skáklist enda skákin blanda af íþrótt og list. Skákveisluhaldarinn,  forseti Skáksambandsins, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, á lof skilið fyrir sína framgöngu að undanförnu. ... Hrafn Jökulsson er annar eldhugi sem kveikt hefur áhuga á skálistinni og unnið henni ómælt gagn auk allra skaksnillinganna sem við eigum...
Grimur

10. Mars 2008

SAMKEPPNISSTOFNUN GEGN SAMFÉLAGI?


...En menn eru ekki búnir að gefast upp. Nú er það Samkeppnisstofnun sem tekur upp þráðinn til að reyna að fullnusta það sem einkavæðingarsinnum tókst ekki í vor og haust. Nú á að banna samfélaginu - okkur öllum -  að eiga orkugeirann saman! Og höfuðið er bitið af skömminni með því að það opinber stofnun sem stendur fyrir þessum hernaði gegn almenningi! Samkeppnisstofnun má gjarnan upplýsa um samráð í almennri verslun, bensínsölu og vöxtum. En hún á að l...

10. Mars 2008

SPURT UM LÍFEYRIS-FORRÉTTINDIN

Formaður allsherjarnefndar segir í 24-stundum, að óski nefndarmenn ekki eftir því að eftirlaunafrumvarp Valgerðar Bjarnadóttur verði tekið fyrir, þá muni það daga uppi. Áríðandi spurning mín er þessi: Mun þingflokkur VG sjá til þess að málið verði tekið fyrir í allherjarnefnd? Í nefndinni situr Atli Gíslason fyrir hönd VG. Þar situr einnig Ellert B. Schram, einn flutningsmanna frumvarpsins. Líka Jón Magnússon fyrir frjálslynda, sem hefur lýst yfir eindregnum stuðningi við áfnám lífeyrisforréttindanna. Þar situr og Siv Friðleifsdóttir, sem sagst hefur áhugasöm um afnám...
Hjörtur Hjartarson

7. Mars 2008

RYKKORN GEIRS


...Eða eru menn búnir að gleyma dæmisögunni um Davíð og Golíat? Gæti það nú ekki verið að málstaður gerði menn smáa eða stóra eftir atvikum. Þannig var Svíþjóð, svo dæmi sé tekið, móralskt stórveldi á dögum Olofs Palme en smækkaði til muna eftir að Svíar tóku að steypa utanríkisstefnu sína  í móti Evrópusambandsins.
Í þessu fari er önnur ræða sem forsætisráðherra vor flutti í vikunni. Til umfjöllunar var mengun af völdum stóriðju á Íslandi. Sem kunnugt er stefna Íslendingar hraðbyri í átt að því að verða á meðal þeirra þjóða sem spúa út mestum koltvísýringi á hvert mannsbarn. Aftur þarna var forsætisráðherra búinn að smækka okkur niður, að þessu sinni í agnarlítið korn. Um mengun af okkar völdum sagði Geir H. Haarde á Alþingi...

7. Mars 2008

FRÉTTAMENN Á ÖÐRUM FUNDI?

Komdu sæll Ögmundur, og takk kærlega fyrir ræðuna í gær. Hún snart mig djúpt eins og svo oft þegar þú talar. Ég held það sé þessi "sanni" réttlætistónn sem er svo hressandi að heyra, nú þegar þjóðfélags og stjórnmálaumræðan einkennist af flatneskju og moði. Svei mér þá ef ræðan minnti mig hreinlega ekki á aðra góða ræðu úr þínum fórum sem fól í sér skilaboðin um að innst inni séum við öll vinstri græn. Það eru orð að sönnu. Þegar ég kom heim hlakkaði ég til að hlusta á fréttir af fundinum. En var mig að dreyma? Greinilega voru fréttamennirnir ekki á sama fundi og ég því svo virtist sem ...
Sigríður Andrésdóttir

7. Mars 2008

Helgi Guðmundsson skrifar: ORÐIN SEM ENGIN TEKUR EFTIR

...Önnur lítt áberandi setning fór í loftið á föstudaginn var, sem ætti að gefa blaðamönnum tilefni til frekari viðbragða. Stjórnarformaður Kaupþings sagði eitthvað á þessa leið: Það er gott að eiga lífeyrissjóðina að þegar svona stendur á. Hvað merkir þessi staðhæfing nákvæmlega? Gerir stjórnarformaðurinn ráð fyrir að sjóðirnir láni bönkunum stórfé þegar aðrar dyr lokast? Hvað þýðir að eiga að í þessu samhengi? Fyrir okkur, sem eigum lífeyrissjóðina skiptir svarið miklu máli....

5. Mars 2008

VARNARÁRÁSIR?

...Æði oft er ég ósammála þér, en ég ber virðingu fyrir þér fyrir heiðarleika og einlægni í umræðu. - Varðandi fyrirspurn þína á Alþingi vegna síðustu atburða í Ísrael - Er það ekki skylda stjórnvalda þarlendra að vernda eigin borgara fyrir flugskeytaárásum? ...
KB

5. Mars 2008

Sigurjón Vigfússon skrifar: RÖNG STÓRIÐJU-STEFNA VG

...Skynsömum mönnum getur skjátlast en ef þeir eru skynsamir viðurkenna þeir mistök sín ef þeim skjátlast. Ég vona að umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra og þingmenn séu allir skynsamir menn og vinni þjóð sinni og heimsbyggðinni til heilla og skoða málin án þessa að láta einkapólitísk sjónarmið og pólitíska hugsun ráða ferðinni og fari að skoða umhverfismál á hnattræna vísu en ekki pólitíska eins og VG og Samfylkingin hafa gert hingað til og þar með ekki hugað að verndun andrúmsloftsins heldur frekar unnið gegn henni. Ísland er ekki eyland í umhverfismálum. Pólitískar vinsældaveiðar og lítt vísindalegar skoðanir ....

5. Mars 2008

EKKI LÍTA UNDAN


Ræða á útifundi á Lækjartorgi
...Þegar íslenskir ráðherrar tala um réttlætingu Ísraela á ofbeldisverkunum þá er þetta samhengið. Ísraelska hernámsliðið hefur í gegnum tíðina lært að lifa með tímabundinni gagnrýni umheimsins. Gagnrýnin er umborin að því tilskyldu að lykilorðið - leyniorðið -  fylgi: „Já, en við vitum að þið eruð að gera þetta í sjálfsvörn." Þannig talar Bush og þannig hafa íslenskar ríkisstjórnir talað í seinni tíð...En það er eitt að skilja á kaldan og tilfinningasnauðan hátt....Þarf að drepa minn bróður, mína systur eða barnið mitt til að ég skilji í alvöru? Þarf að sprengja heimili  mitt í loft upp eða sjúkrahúsið þar sem faðir minn liggur, gamall og sjúkur, til að ég skilji til fulls fréttirnar frá Gaza?...Ég spyr: Styður ríkisstjórn Íslands ofbeldisstjórn Ohlmerts?...

4. Mars 2008

ÚTIFUNDUR Á LÆKJARTORGI GEGN OFBELDI Í PALESTÍNU

motmaelafundur Palestina 5.3.08
Á morgun, miðvikudag klukkan 12:15, er boðað til útifundar á Lækjartorgi í Reykjavík til að mótmæla hernaðarofbeldinu á Gaza svæðinu í Palestínu. Yfirskrift fundarins er: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið á Gaza. Á Gaza svæðinu hafa á örfáum dögum á annað hundrað manns verið myrtir, þar af tugir barna. Til viðbótar hafa mörg hundruð manns særst í árásum ísraelska hersins... Öllu fólki um heiminn allan ber siðferðileg skylda til að láta frá sér heyra...Þetta er það minnsta sem við getum gert - og hvernig sem viðrar. Með því að mæta á fundinn fylkjum við okkur að baki kröfunni á hendur íslenskum stjórnvöldum...  

3. Mars 2008

EGILL OG GUÐLAUGUR ÞÓR Á SKRAFI


...Eftir að Guðlaugur Þór fór að bjóða út störf á Landspítalanum hefur hann gerst ljósfælinn. Alltaf þegar ráðerrann hefur auglýst nýjar deildir eða nýja starfsemi til útboðs mætir hann í fréttatímana til að lýsa því einhliða yfir að þetta hafi ekkert með einkavæðingu að gera. Hvílíkur misskilningur! Já hvílíkur misskilningur, át Egill, þáttastjórnandi upp í drottningarviðtalinu á sunnudag. Þetta hefur allt verið til góðs, er það ekki Guðlaugur Þór? Sóltún og allt það? Jú, allt af hinu góða svaraði einkavæðingarmálaráðherrann og ók sér makindalega í drottningarhásæti Silfursins...

2. Mars 2008

FRÁBÆR SKRIF BALDURS ANDRÉSSONAR

Grein Baldurs Andréssonar, Hústákn - Táknhús, sem þú birtir hér á heimasíðunni undir yfirskriftinni, Frjálsir pennar, er hreint afbragð. Greinin er frábærlega vel skrifuð og vissulega þess virði að lesa vel. Baldur er ekki bara að tala um hús heldur þjóðfélag, þjóðfélagsbreytingar og pólitík,  en hann gerir þetta á ...
Haffi

2. Mars 2008

ÁKALL: ÍSLAND RJÚFI STJÓRNMÁLASAMBAND VIÐ ÍSRAEL


Yfir helgina hafa okkur borist fréttir af „aðgerðum" Ísraelshers á Gaza svæðinu og „hernaðarátökum" þar. Þessi orðanotkun er villandi. Í reynd er hér verið að segja frá kaldrifjuðum árásum og morðum á óbreyttum borgurum. Í dag sendi formaður félagsins Ísland Palestína, Sveinn Rúnar Hauksson læknir, frá sér áskorun til íslenskra stjórnvalda og hvet ég lesendur til að kynna sér þessa yfirlýsingu. Ég hvet jafnframt allt fólk til að l...

1. Mars 2008

SEGÐU ÞAÐ AFTUR OG HÆRRA!

Var að lesa ræðu þína af lífeyrismálþingi BSRB. Algerlega sammála áherslum þínum. Ef lífeyrissjóðirnir hefðu skilið til fulls félagslega ábyrgð sína hefðu þeir aldrei látið það gerast að bruðlað væri eins með peningana okkar og gert hefur verið. Lífeyrissjóðirnir gætu verið stefnumótandi um þjóðfélagsþróun í stað þess að vera hækja stórkapitalsins sem fær afhentan lögþvingaðan sparnað okkar ...
Jóel A.

1. Mars 2008

Baldur Andrésson skrifar: HÚSTÁKN - TÁKNHÚS

... Í eina tíð varð þétt samstaða um að efla opinbera heilsuvernd meðal almennings á Íslandi. Í Reykjavík birtist viljinn í táknmynd, sem var um leið ramminn um nauðsynleg margháttuð verkefni í opinberri heilsugæslu. Táknmyndin varð að einu fegursta húsi borgarinnar í prýðilegu umhverfi við Barómstíg, nútímaleg klassík, gleðifúnkis. Mikið hugvit og umbótavilji lá mannvirkinu til grundvallar. Lengi vildu allir þá Lilju kveðið hafa. Þar varð miðstöð mæðraverndar, sóttvarna, skólatannlækninga og annarrar grundvallarþjónustu við almenning.
Allt var til reiðu að umbreyta húsinu hið nnra eftir kröfum tímans, almennt viðhald Var smámál. Lóðin gaf stækkunarmöguleika. Einhver stjórnarnefnd skriffinna og smásála útbjó eftir pöntun dauðadóm yfir þessari glæstu velferðartáknmynd fyrir nokkrum árum.  R listinn villtist til að...

1. Mars 2008

ER KOMINN TÍMI TIL AÐ SELJA ÞOTURNAR?


...Okkur ber að spyrja hvort notkun peninganna sé hugsanlega besti mælikvarðinn á geymsluna; að ef þeir eru vel notaðir þá séu þeir vel geymdir og ef illa notaðir þá séu þeir jafnframt illa geymdir... Samfélag sem er vel fjármagnað af eigin sparnaði á lágum vöxtum, með háu atvinnustigi er arðbær fjárfesting. Samfélag sem skapar slíkan arð er örugg fjárfesting. Er ef til vill kominn tími fyrir innrás í stað útrásar? Eru íslenskir bankar tilbúnir í innrás til Vestfjarða? Tilbúnir til að hjálpa til að skapa gott mannlíf á Norðurlandi? Eru íslenskir bankar tilbúnir til að minnka? Tilbúnir til samráðs við samfélagið? Tilbúnir til að hlusta? Tilbúnir til að selja þoturnar og keyra um á Toyota Yaris og Nissan Micra? Vera hluti af þjóðfélaginu? Tilbúnir til aðeins meiri auðmýktar, skilnings, ábyrgðar...?

1. Mars 2008

VEL HEPPNAÐ MÁLÞING UM LÍFEYRISMÁL


Í gær var haldið mjög vel heppnað málþing á vegum BSRB um lífeyrismál. Málþingið var tileinkað Gunnari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Sjúkraliðafélags Íslands en hann fyllir 70 ár á þessu ári. Gunnar á sér langa sögu innan verkalýðshreyfingarinnar og hefur látið mjög að sér kveða í réttindabaráttu launafólks um áratugaskeið. Sérstaklega hefur hann komið við sögu lífeyrismála einsog ég kom að í erindi mínu á málþinginu sem einnig er að finna hér á síðunni. Á myndinni hér að ofan er Gunnar (lengst til hægri)  ásamt mér, Sigurði Einarssyni  stjórnarformanni Kaupþings banka, sem flutti erindi á ráðstefnunni og Guðna Ágústssyni, formanni Framsóknarflokksins sem heiðraði ráðstefnuna með nærveru sinni...

29. Febrúar 2008

MINNT Á MÁLÞING UM LÍFEYRIMÁL HJÁ BSRB


Í dag klukkan 13 verður efnt til rúmlega tveggja tíma málþings um lífeyrismál í höfuðstöðvum BSRB að Grettisgötu 89 í Reykjavík.  Þeir sem þar tala eru að ýmsu leyti eins konar tákngervingar fyrir aðskiljanlega þætti hinnar félagslegu og fjármálalegu  umgjarðar um íslenska  lífeyriskerfið. Þar mun mæla fulltri lífeyrissjóðanna allra, Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða; forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins ... SigríðutrLilly Baldursdóttir;  stórvesír úr banka- og fjárfestinagaumhverfinu, Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings banka en hann fjallar um hlutdeild lífeyrissjóðanna í „útrásinni" og síðan höfum við hina bókmenntalegu og sögulegu sýn bókmenntafræðingsins.. Katrínar Jakobsdóttur. Ég verð einnig með innleg á þessari ráðstefnu sem...

28. Febrúar 2008

"EINRÆKTAÐUR" HÆSTIRÉTTUR

 Í gær var fróðlegur fundur vestur í Lagadeild Háskóla Íslands um málefni Hæstaréttar. Þar kemur fram í máli Hrafns Bragasonar fyrrum hæstaréttardómara að allir núverandi dómarar réttarins hafi verið skipaðir af Sjálfstæðisflokknum. Nú hefur komið fram í máli ýmissa sem virðast eiga „sárt um að binda" í vandræðunum miklu sem flokkur þessi á við að stríða við stjórn Reykjavíkurborgar, „að gæta verði hagsmuna flokksins" varðandi þennan ...
Guðjón Jensson

28. Febrúar 2008

LANDAKOT OG IÐNSKÓLINN: SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR EINKAVÆÐIR Í KYRRÞEY


...Á öðrum stað er annar ráðherra að verki. Þorgerður Katrín, menntamálaráðherra, vinnur að því að flytja starfsmenn Iðnskólans úr opinberu umhverfi yfir í háeeff. Samkvæmt mínum heimildum verður það gert við hátíðlega athöfn á morgun. Boðað er að fólkinu verði auðveldað að renna þessum bita niður með léttum veitingum, sem svo eru kallaðar.  Ekki veit ég hvort starfsfólki finnst þetta vera tilefni þess að efna til fagnaðar. Ég hlakka til að heyra fjölmiðlana spyrja menntamálaráðherra útúr. Til dæmis hvort henni finnist ekki ástæða til að ræða svona nokkuð á Alþingi og fá þar lagalega heimild til verkanna. Eða hvort hún telji sig sleppa framhjá lögunum. Getur það verið? VG hefur óskað eftir utandagsrárumræðu. Þar mun Kolbrún Halldórsdóttir, málshefjandi, eflaust spyrja út í lögin og sennilega einnig siðferðið...

27. Febrúar 2008

HVORT ER BETRA AÐ VITA EÐA VITA EKKI?

...Svo kemur Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra í viðtal og þvær hendur sínar; þetta mál kemur honum ekkert við. Það gerði hann í læknaritaraútvistuninni. Það mál snerist um eitthvert fólk, sagði hann okkur, sem væri honum allsendis  óviðkomandi! Heldur maðurinn að við séum fífl? Eða hvað? Er Guðlaugur Þór kannski að segja rétt frá; að hann viti ekki neitt? Er kannski verið að vinna að markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins  úti í bæ og ráðherrann lesi bara um árangurinn í blöðunum? Getur verið að Guðlaugur Þór sætti sig við að sitja í stúku og fylgjast með - ekki sem gerandi heldur...
Sunna Sara 

27. Febrúar 2008

GUÐLAUGUR ÞÓR OG ÞÖGLI FÉLAGINN


...Heiðarleiki?  Ekki finnst mér það. Heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins einkavæðir á bak við tjöldin og afneitar á sama tíma einkavæðingarstefnu flokks  síns þegar fjölmiðlar ganga á hann. Samfylkingin er hins vegar hinn þögli félagi, the silent partner einsog Bretar kalla þá sem samþykkja með þögninni það sem þeir þora ekki að gangast við opinberlega. Hinn þögli félagi. Skrítið hlutskipti. Stórmannlegt? Nei, bara Samfylking...

26. Febrúar 2008

MEIRA ÁL OG HEILBRIGÐA OKURVEXTI !


Í opnugrein í Morgunblaðinu í dag breiða þeir úr sér þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki. Þeir telja sig kunna leiðir til að lækna efnahagsmein þjóðarinnar.
Þeir, sem aðrir, hafa af því áhyggjur að staða fjármálakerfisins kunni að vera slæm. Í Morgunblaðinu í gær vék Geir H. Haarde, forsætisráðherra einnig að dvínandi gengi íslensku bankanna erlendis....Hugleiðum þá stöðu sem nú er uppi. Viðfangsefnið er slæm staða bankanna sem hafa farið illa að ráði sínu í fjárfestingabraski. Sem betur fer hefur enn tekist að afstýra meiri háttar þrengingum því íbúðakaupendur hafa átt sér bakhjarl í Íbúðalánasjóði. Nú er hins vegar lausn Íhaldsins á vanda bankanna að afhenda þeim...

25. Febrúar 2008

HÁSKÓLARNIR OG „AFBURÐAFÓLKIÐ"


...Þetta kom mér í hug þegar sagt var frá því í fréttum nýlega að Háskólinn í Reykjavík hefði samið við Landsbankann um stuðning við allt að 35 afburðanemendur sem hæfu nám við skólann á hverju ári. Fram kom að bankinn hyggðist greiða skólagjöld nemendanna á fyrstu önn og 150 þúsund kr. í framfærslustyrk, samtals 278 þúsund á nemanda. Allt er þetta gert fyrir mína hönd því svo vill til að ég er í föstum viðskiptum við Landsbankann. Ef ég mætti velja vildi ég frekar lægri vexti og minni greiðslur til „afburðanemenda" við Háskólann í Reykjavík. Í morgun segir Fréttablaðið okkur svo frá því að Háskóli Íslands ætli út á sömu braut. Í fréttinni segir m.a...

25. Febrúar 2008

VERÐUR RÍKIS-STJÓRNINNI ÚTHÝST?

Hvernig skýrir þú fylgi ríkisstjórnarinnar, en samkvæmt skoðanakönnunum er það meira en í síðustu kosningum? Það er með ólíkindum hve mikið fylgi stjórnarflokkanna er samkvæmt könnunum sem birst hafa að undanförnu. Getur verið að þjóðin sé ...
Haffi

25. Febrúar 2008

Þór Þórunnarson skrifar: UM EINKA-VÆÐINGU, MARKAÐS-VÆÐINGU, OG HAGKVÆMNI

Lengi hef ég setið hljóður hjá og hugsað um einkavæðingu opinberra fyrirtækja. Séð banka og önnur fyrirtæki vera seld. Ég hef, eins og margir aðrir, undrað mig á því hvernig aðferðafræðin var, og er, varðandi söluna. Af hverju allt þetta pukur, af hverju fá sumir bara að kaupa en ekki aðrir? Nú síðast hefur opnast umræða um hvernig húseignir Bandaríkjahers á Miðnesheiði hafa verið meðhöndlaðar. Sömu spurningar er hægt að spyrja sig um sölu ríkisbankanna og öllum er í fersku minni salan á Hitaveitu Suðurnesja. Ég er nokkurn veginn sannfærður um að hér eru maðkar í mysunni; örlítil þekking á mannlegu eðli segir mér það. Það er ekki það sem ég ætla að ympra á hér, heldur það sem alltof lítið hefur verið rætt í þessu sambandi - Af hverju að einkavæða?  Það er búið að...

24. Febrúar 2008

STÓRGÓÐUR ANDRÉS


Egill Helgason hefur náð því sem Mogginn hefur náð fyrir löngu: Maður verður eiginlega að sjá þáttinn.  Það þýðir ekki að maður sé alltaf 100% sáttur - ekkert fremur en að maður sé alltaf sáttur við Moggann. Í báðum tilvikum þyrfti oftar að róa á róttækari mið - og gagnrýnni á vald og viðteknar skoðanir - þótt vissulega sé það stundum gert.  
Mér fannst gaman að heyra í viðmælendum Egils í dag og tek undir það sem fram kemur í lesendabréfi hér á síðunni þar sem Grími Atlasyni og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur er sérstaklega hrósað fyrir góðan málflutning. Sá maður, sem ég ætla hins vegar að staldra við er Andrés Magnússon, læknir...

24. Febrúar 2008

RÉTT HJÁ GUÐFRÍÐI LILJU!

Ég hlustaði á Silfur Egils í dag. Álver, álver, álver, mér sýnist þetta vera það eina sem Sjálfstæðisflokki dettur í hug, sem svar við samdrætti í efnahagslífinu. Grímur Atlason, bæjarstjóri í Bolungarvík, andmælti þessari nauðhyggjuhugsun ágætlega og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, VG,  af ekki síðri krafti en jafnframt yfirvegun. Hún benti á hinar raunverulegu lausnir, að styrkja innviði samfélagsins og koma síðan til móts við byggðarlögin á þeirra forsendum.  Við yrðum að hafa ...
Grímur

23. Febrúar 2008

FLOKKSRÁÐSFUNDUR VG: LANGLUNDARGEÐ GAGNVART SAMFYLKINGU Á ÞROTUM


...Að því marki sem þessi fundur endurspeglar viðhorfin hjá skoðanasystkinum okkar í þjóðfélaginu er greinilegt að á þrotum er  langlundargeðið gagnvart ríkisstjórninni og þá einkum Samfylkingunni  sem ýmsir úr þessum ranni stjórnmálanna höfðu haft væntingar um að stæði í ístaðinu í stjórnarsamstarfinu með Sjálfstæðisflokknum. Mat fundarmanna var að hið gagnstæða hefði gerst. Stefna Sjálfstæðisflokksins væri samþykkt, annað hvort með þögn Samfylkingarinnar  eða með beinum stuðningi hennar. Dæmi um þetta er úr ályktun um heilbrigðismál þar sem segir meðal annars...

22. Febrúar 2008

FRÁ VELFERÐAR-ÞJÓNUSTU TIL MARKAÐSKERFIS

Hinn 15. febrúar skrifar þú pistil hér á síðuna undir spyrjandi fyrirsögn, Á Sóltúnstaxta? Tilefnið var fréttamannafundur sem Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, efndi til með forstöðufólki Heilsuverndarstöðvarinnar ehf. Ég sá umfjöllun um þennan viðburð í 24 Stundum og Morgunblaðinu. Ekki hef ég orðið var við umfjöllun annars staðar. Þessir litlu stafir, sem búið er að setja fyrir aftan Heilsuverndarstöðina, það er, ehf,  marka óneitanlega tímamót í sögu íslenska velferðarkerfisins. Getur verið að...
Haffi

21. Febrúar 2008

EKKI RÍKISÁBYRGÐ FYRIR EINKAFYRIRTÆKI!

Ég var að lesa pistil Þórs Þórunnarsonar á vefsíðunni þinni, og vægt til orða tekið, hryllir mig við því sem þar kemur fram; tilhugsuninni um hvað stjórnvöld Sjálfstæðisflokksins,  Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar hafa gert íslensku þjóðinni undanfarin ár. Ef Þór hefur virkilega rétt fyrir sér, sem ég efast ekki um, þá er ekki nóg með að einkavinavæðingin hafi að mestu leyti verið hreinn þjófnaður á sameignum íslensku þjóðarinnar sem hún hefur haft mikið fyrir að eignast, heldur hafa stjórnvöld gert ríkissjóð ábyrgan fyrir braski einkafyrirtækja....
Úlfur

21. Febrúar 2008

ÓSKAÐ EFTIR FRAMHALDSFRÉTT


...En til að byrja með mætti spyrja Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar hvort yfirlýsingar hans á aðalfundi SVÞ séu fráhvarf frá fyrri stefnu í menntamálum ...Þá væri fróðlegt að heyra álit rektorsins í Bifröst hvort honum finnist eðlilegt að allir sem setja á fót háskóla eigi rétt á aðkomu að veski okkar skattgreiðendanna? ...Og Sigurð Jónsson framkvæmdastjóra SVÞ þarf endilega að fá til að útskýra fyrir okkur hvernig hann hyggist spara 1,6 milljarð í heilbrigðiskerfinu á fjórum árum með einkavæðingu...Er nóg að mæta í hljóðstofu og staðhæfa eitthvað út í loftið? Yfirskrift fréttarinnar á RÚV var staðhæfing: „SVÞ: Einkarekstur er hagkvæmari." Er hann það? Hver segir það? Hvar? Alls staðar? Alltaf...?

20. Febrúar 2008

ÍSLENSKA RÍKIÐ Í MILLJARÐA SKULDBINDINGU VEGNA EINKAFYRIRTÆKIS

Þegar einkavæðing bankanna stóð fyrir dyrum þá var ég örlítið efins. Ekki það að ég væri ósammála flestum þeim rökum sem beitt var fyrir einkavæðingu. Aðallega fannst mér gott til þess að vita að afdanka stjórnmálamenn hefðu ekki áskrift að bankastjórastöðum þegar þeir nenntu ekki, eða fengu, að vera lengur á þingi. Einnig var ég sammála því að óþarfi væri, í sjálfu sér, að ríkið stæði í bankastarfsemi. Ég ætla ekki hér að rekja þá umræðu frekar, heldur benda á eitt atriði sem ...
Þór Þórunnarson

19. Febrúar 2008

GÓÐA FÓLKIÐ Í RÍKISSTJÓRNINNI?


Ég skal játa það hreinskilnislega að mér varð hálf illt innra með mér þegar ég hlýddi í dag á Geir H. Haarde, formann Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, kætast yfir nýgerðum kjarasamningum fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar. Ég man satt að segja ekki eftir eins hástemmdum lýsingaroðrum í tengslum við kjarasamninga og við urðum vitni að á Alþingi í dag...En að ríkisstjórn stórfyrirtækjanna og hátekjufólksins geti leyft sér það sjálfshól og mærðartal sem þjóðin hefur orðið vitni að síðustu dægrin með skírskotun til árangurs þessara samninga er út úr öllu landakorti og hróplega úr takti við hinn daglega veruleika fólks með innan við 300 þúsund krónur í kaup á mánuði...

19. Febrúar 2008

TÍMAMÓT- VERKAFÓLK GREIÐIR SJÁLFU SÉR LAUNAHÆKKANIR

 Í  ný-undirrituðum kjarasamningum ASÍ og SA virðist verkafólk greiða sér sjálft launahækkanirnar. Það er þannig gert að laun hækka  um 18- 21 þús. Af því borgar verkalýðurinn staðgreiðsluskatt ca. 7500kr.  sem svo er notaður til að borga niður skattalækkun atvinnurekenda ...Er nema von að menn kætist? Verkalýðurinn borgar sér sjálfur og tekur auk þess atvinnurekendur á bakið. Það er svo sem ekkert nýtt. Nema hvað íslenskir atvinnurekenur eru orðnir heldur þyngri ...
Rúnar Sveinbjörnsson

 

18. Febrúar 2008

ÖMURLEGT AÐ HLUSTA Á HÁLAUNAFÓLKIÐ

Það er einfaldlega ömurlegt að hlusta á hálaunafólkið troða upp í fjölmiðlum  og mæra nýgerða kjarasamninga ASÍ. Ofboðsleg hrifning. Samt eru launin áfram undir fátækramörkum. Athyglisvert að álitsgjafarnir eru allir með margfalt hærri tekjur en fólkið sem samið er fyrir og kemur til með að vera með heilar 138 þúsund krónur á mánuði fyrir fulla vinnu. Það er von að ritstjórar blaðanna séu hrifnir, sjálfir með ...
Haffi

18. Febrúar 2008

SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKURINN Á EKKI AÐ EIGA EMBÆTTI

Telst það eðlilegt ástand að stjórnmálaflokkur, í þessu tilfelli Sjálfstæðisflokkurinn, „eigi" ákveðin embætti hvort sem það eru dómaraembætti, sýslumannaembætti, staða seðlabankastjóra eða sendiherra eða nú síðast forstöðumaður Þjóðmenningarhúss? Svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn komist upp með ásamt Framsóknarflokknum sem vonandi heyrir sögunni til að tryggja sínum mönnum þessi embætti hvort sem þau eru auglýst formsins vegna eður ei. Mér hefur alltaf fundist ...
Guðjón Jensson

18. Febrúar 2008

Jón Torfason skrifar: SKIPULAGS-TILLÖGUR UM VATNSMÝRI

Rétt fyrir helgina voru kynntar skipulagstillögur um byggð í Vatnsmýrinni. Það er svosem saklaust þótt stórfé sé eytt í svona skipulagsvinnu því alltaf koma fram einhverjar hugmyndir sem eru nýtilegar í öðru samhengi. Hins vegar eru ekki miklar líkur á að þetta skipulag komist nokkurn tíma til framkvæmda því ástæðulaust er að leggja Reykjavíkurflugvöll niður. Skal aðeins minnt á hve nauðsynlegur flugvöllurinn er fyrir tengingu höfuðborgarinnar við landsbyggðina því um 1200-1500 manns fara um völlinn á hverjum degi í innanlandaflugi, en þar að auki kemur margs konar millilandaflug. Að beina innanlandsflugi til Keflavíkur, sem er eini annar raunhæfi kosturinn, jafngildir því að ...

18. Febrúar 2008

STEINGRÍMUR, ÁLIÐ OG FISKURINN


Stundum birtast greinar sem eru þess virði að fólk staldri við og gefi sér tíma til að gaumgæfa. Ein slík grein birtist í Morgunblaðinu í gær eftir Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Greinin fjallar um virðisaukann fyrir íslenskt þjóðfélag og efnahagslíf, sem stóriðjan skapar annars vegar og aðrar atvinnugreinar hins vegar. Í ljós kemur að virðisaukinn af stóriðju er miklu minni en af öðrum atvinnugreinum. Þetta er staðreynd þrátt fyrir að stóriðjusinnar hamri á hinu gagnstæða. Í annan stað væri það umhugsunarefni ef það væri orðin staðreynd að ...

17. Febrúar 2008

GEIR HITTIR ALLA HELSTU GÆJANA !


...Svo taldi hann þá upp, Evrópusambands-bírókratana og forsvarsmenn NATÓ - hann myndi ræða við sjálfan framkvæmdastjórann!  Þetta verður örugglega óskaplega skemmtilegir fundir hjá okkar manni með „gæjunum"  í Brussel...Annars er þetta dæmigert fyrir Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu: Öllu reyna þessir systurflokkar í ríkisstjórn að koma út á markað, heilbrigðiþjónustunni, launamyndun hjá hinu opinbera, raforkunni og annarri þjónustu. Síðan er viðkvæðið að stjórnvöld beri enga ábyrgð, það sé bara við markaðinn að sakast ef einhver sé óánægður, menn skuli þá snúa sér til fyrirtækjanna, Alcan og Alcóa, Öldungs hf og Heilsuverndarstöðvarinnar ehf.  En er þetta rétt? Er það svona sem við viljum hafa þetta? Vitaskuld ekki! Að sjálfsögðu eiga Alcoa og önnur stóriðjufyrirtæki  ekki að ákveða hvernig við ...

17. Febrúar 2008

REYKJAVÍKURBRÉF: ÁBYRGÐ LÖGGJAFNAS Í FALLVÖLTUM HLUTHAFAHEIMI?


...Skiljanlegt er að hluthafar sem hafa tapað á verðbréfahruni að undanförnu reiðist þegar þeir horfa upp á hvernig farið er með fjármuni þeirra þegar forstjórar eru annars vegar. Við hin þurftum (mörg hver alla vega) ekki að verða vitni að neinu hruni til að gagnrýna hið margfræga óseðjandi þotulið sem aldrei virðist kunna sér hóf. Tilefni þess að ég skrifa þessar línur er þó ekki fyrst og fremst til að taka undir með höfundi Reykjavíkurbréfs heldur  að benda á það sem vantar í þann hluta bréfsins sem fjallar um ábyrgð stjórnvalda. Hún á að mínu mati að felast í því að ...

16. Febrúar 2008

FYLGJUM GUÐFRÍÐI LILJU Í FRÍKIRKJUNA


Sunnudaginn 17. febrúar, klukkan  16, skulum við fara að hvatningu Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, skákdrottningar, rithöfundar og íkveikjukonu í félagslegu réttlæti  -  og fylla Fríkirkjuna í Reykjavík til varnar Þjórsánni.  Undir lok hugvekju sinnar í laugardagspistli sínum í Morgunblaðinu, segir Lilja: „ Hvar í flokki sem við stöndum , eða stöndum ekki, þá skulum við fjölmenna í Fríkirkjuna á morgun. Heimamenn eiga skilið og finna fyrir stuðningi okkar allra - og þau þurfa á slíkum stuðningi að halda. Þjórsá á skilið þjóð sem kann að meta eigin dýrgripi og stendur um þá vörð."...

16. Febrúar 2008

GETUR VERIÐ AÐ HJARTAÐ VANTI Í SAMFYLKINGUNA?

Svo virðist sem ríkisstjórnin muni spila út kosningaloforðum Samfylkingarinnar sem sínu framlagi í samningaviðræðum SA og ASÍ. Þar má nefna úrbætur í húsnæðismálum, lagfæringar á frítekjumörkum og fleira. Samfylkingarráðherrar munu kalla þetta klókindi - að nota sömu loforðin tvisvar - en aðrir blekkingar. Flokkurinn og forystumenn hans hafa átt erfitt með að sjá muninn á þessu tvennu. En munurinn er þessi:...
Hreinn Kárason

16. Febrúar 2008

SEÐLABANKA-STJÓRI OG OKRIÐ

...Nýir kjarasamningar eru í burðarliðnum og nú stendur á stjórnvöldum að unnt sé að samykkja og undirrita. Að mér skilst er það einn maður sem er í hlutverki Þránds í götu og það er aðalbankastjóri Seðlabankans sem vill halda í okurvextina. Um þetta hefi eg fjallað á ...
Guðjón Jensson

15. Febrúar 2008

HÁRRÉTT HJÁ FINNI

Það er rétt athugað hjá Finni Dellsén í grein hér á heimasíðu þinni Ögmundur, að það er verið að koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi og þjóðin virðist ætla að láta þetta gerast í kyrrþey. Finnur segir: „Tveir mestu frjálshyggjumennirnir í Sjálfstæðisflokknum, Guðlaugur Þór og Pétur Blöndal, leiða stefnumótunina í átt að meiri einkavæðingu og einkarekstri - allt með dyggum stuðningi Samfylkingarinnar. Nokkrir áhrifamiklir læknar lýsa yfir vilja...
Haffi

15. Febrúar 2008

Finnur Dellsén skrifar: ER EKKI SAMA HVAÐAN VONT KEMUR?

Um það leyti sem verið var að mynda ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skrifaði ég pistil um ótta minn við að þessi ríkisstjórn gæti gengið enn lengra í frjálshyggju en fyrri ríkisstjórnir. En ég tók líka skýrt fram að það væri ekki vegna þess að ég héldi að Samfylkingin væri svo hægrisinnuð. Það er miklu frekar vegna skorts á skýrri stefnu, afstöðuleysi gegn hægristefnunni sem Sjálfstæðisflokkurinn talar fyrir. Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa einfaldlega ekki tekið skýra afstöðu í mörgum af þeim málum sem mestu skipta. Nokkrar einfaldar spurningar um helstu deilumál í íslenskum stjórnmálum afhjúpa þetta...

15. Febrúar 2008

UM SPILLINGU OG ÁBYRGÐ ALÞINGIS

Til hamingju með nýju heimasíðuna. Hún er stórfín. Í pistli á heimasíðunni 5. febrúar segir þú um Samfylkinguna: "Pínulítil sál sem leyfir spillingunni að hafa sinn gang með þögn sinni." Ég er sammála þér. Annað geigvænlegt spillingarmál er skipan héraðsdómara fyrir norðan og austan. Að mínu viti hefði mátt heyrast meira frá VG um það mál. Ég er nefnilega sammála þeim orðum sem Sigurður Líndal hafði um framgöngu setts dómsmálaráðherra, Árna Matthiesen...
Hjörtur Hjartarson

15. Febrúar 2008

GUÐLAUGUR ÞÓR OG MILLILIÐIRNIR

...Ein ástæðan fyrir gagnrýni á einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar hefur verið sú að með því sé þjónustunni sundrað. Fyrir bragðið verði erfiðara um vik að hafa yfirsýn og tryggja samfellda þjónustu. Þetta sér einkapraxísinn að sjálfsögðu og finnst gott að vera saman - undir einu þaki. Skiljanlega. En ég spyr hvers vegna að leyfa Guðlaugi Þór að setja inn milliliði í heilbrigðiskerfið? Hvers vegna ehf-in? Hvort þjónar Guðlaugur Þór fjárfestum eða almenningi? Í mínum huga ...
Sunna Sara

15. Febrúar 2008

Á SÓLTÚNSTAXTA?


Nú er búið að læða stöfunum ehf. fyrir aftan okkar gömlu góðu Heilsuverndarstöð við Barónsstíg í Reykjavík. Snjallt hjá prívatfyrirtæki að kalla sig Heilsuverndarstöðin í Reykjavík. Traustvekjandi nafn! Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, var gleiðbrosandi þegar hann, ásamt Maríu Ólafsdóttur, yfirlækni Heilsuverndarstöðvarinnar ehf, skrifaði undir samninga ríkisins. Það var við hæfi því það verður ríkissjóður sem mun standa straum af rekstrarkostnaði hlutafélagsins. Morgublaðið sýndi þessa ánægjustund á mynd undir þeirri fyrirsögn að nú byðust  „sveigjanlegir möguleikar á vistun í hvíldarrýmum". Hljómar vel. Nokkuð sem fjársveltar stofnanir hafa gjarnan viljað gera. Á Heilsuverndarstöðinni ehf verður boðið upp á...

15. Febrúar 2008

VILHJÁLMUR TIL BJARGAR?

Birtist í 24 Stundum 14.02.08.
24 stundirSíðastliðin ár hafa fréttir af manneklu innan almannaþjónustunnar - á velferðarstofnunum og í löggæslunni - orðið æ tíðari. Öllum ber nú saman um að ástandið hafi aldrei verið verra. Ef ekkert er að gert blasir við neyðarástand á grunnstofnunum velferðarsamfélagsins.  Þetta bitnar á þeim sem síst skyldi, börnum, öldruðum, veikum og fötluðum, auk þess sem starfsfólki er boðið upp á að vinna undir ólíðandi álagi og bágum kjörum. Til verður til vítahringur: Fólk flýr bágborin kjör, úr verður mannekla, sem aftur eykur á álagið. Og starfsfólkið leggur á flótta.
Kjarakannanir hafa sýnt að gliðnun hefur orðið í kjaraþróun á milli almenna markaðarins og almannaþjónustunnar á undanförnum misserum, almannaþjónustunni  í óhag. Við þessu þarf að bregðast í komandi kjarasamningum...

15. Febrúar 2008

SA GEGN SAMNINGSRÉTTI

Birtist í Fréttablaðinu 14.02.08.
FB logoGreinilegt er að samtök atvinnurekenda leggja nú allt kapp á að fá ríkisstjórnina til að undirgangast loforð um að hvergi verði komið til móts við kjarakröfur launafólks innan almannaþjónustunnar umfram það sem Samtökum atvinnulífsins þóknast. Þessi krafa SA, sem m.a. hefur komið fram í Fréttablaðinu, gengur út á að ríkisstjórnin hundsi samningsrétt BSRB og annarra samtaka sem semja fyrir launafólk innan almannaþjónustunnar. Í annan stað er þetta krafa um að  ríkisstjórnin svíki gefin fyrirheit um að bæta verulega kjör stétta innan velferðarþjónustunnar. Að undanförnu hafa borist fréttir af ...

14. Febrúar 2008

EIGA EKKI GEIR OG ÁRNI AÐ AXLA ÁBYRGÐ?

Birtist í Morgunblaðinu 13.02.08.
MBL  - Logo...Leiðin fyrir fjárfesta inn í orkugeirann opnaðist þegar ríkisstjórn Geirs H. Haarde ákvað að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja síðastliðið vor. Þessari ráðagerð var mótmælt harðlega á sínum tíma og áður en gengið var frá kaupunum krafðist þingflokkur  VG þess að horfið yrði frá þessari fyrirætlun. Þá var Samfylkingin komin inn í ríkisstjórn í stað Framsóknar, en allt kom fyrir ekki. Hvorki Geir H. Haarde, forsætisráðherra né Árni M. Mathiesen, fjármálaráherra, léði þessu máls og Samfylkingin tók einsog fyrri daginn afstöðu með þögninni...

13. Febrúar 2008

LAFFER: VÍTI TIL VARNAÐAR


...Athyglisverðast við þáttinn var að vera minntur á hve hægri sinnuð bandarísk stjórnmál eru. Gildir þá einu hvort um er að ræða demókrata eða repúblikana. Vonandi höldum við aldrei inn í þennan pólitíska veruleika - þar sem æðsta takmarkið er að finna leiðir til að takmarka samfélagsleg umsvif!  Ég veit að á meðal vor eru margir sem langar. Þeir sátu með glýju í augum á fremsta bekk á fyrirlestri Laffers í Þjóðmenningarhúsinu í haust. Bogi brá upp mynd af þeim mannskap. Hollt að vera minntur á allt þetta. Boðskapinn og mannskapinn á bekknum. Gott að vera ...

12. Febrúar 2008

BSRB MÓTMÆLIR FORRÆÐISHYGGJU OG FREKJU


Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, hefur lýst því yfir opinberlega að atvinnurekendur muni hvetja ríkisstjórnina til að hlíta í einu og öllu því sem SA komi til með að semja um við sína viðsemjendur. Hvað felst í þessu? Tvennt felst í þessu: Annars vegar krafa um að ríkisstjórnin hundsi samningsrétt sinna viðsemjenda. Hins vegar er þetta krafa um að ríkisstjórnin svíki gefin fyrirheit um að bæta verulega kjör stétta innan velferðaþjónustunnar...Hvað vakir fyrir Samtökum atvinnulífsins? Eru atvinnurekendur að hjálpa ríkistjórninni við að svíkja viðsemjendur sína og hundsa samningsrétt þeirra? ...

11. Febrúar 2008

BÍRÆFNI


..Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs,  gekkst fyrir því að forsætisráðuneytið svaraði því hve miklum fjármunum hefði verið ráðstafað úr ríkissjóði á hálfu ári í aðdraganda síðustu kosninga, frá því í desemberbyrjun 2006 og fram að kosningum í maí vorið 2007. Skýrsla ráðuneytisins birtist í dag...Hver man ekki eftir öllum borðaklippingunum, fréttamannafundunum og yfirlýsingunum á þingi? Vinstrihreyfingin grænt framboð lagði í kjölfar kosninganna  til að tekið verði fyrir svona ráðslag með lögum. Óneitanlega gerist áleitin sú hugsun að siðleysi í íslenskum stjórnmálum kunni að vera meira en víða annars staðar. Hvað á annars að kalla ...

11. Febrúar 2008

FRJÁLSLYNDIR GEFA LÍTIÐ FYRIR LÆKNARITARA

...Ég sat á pöllunum við þessa umræðu og hlustaði á þessa heimskulegu en jafnframt hrokafullu ræðu.  Maðurinn gaf ekkert fyrir  það hvort kjör okkar læknaritara skertust eða ekki. Síðan veit hann augljóslega ekkert  um eðli starfsins. Er eðli starfs þingmanna að tjá sig um mál án þess að gera minnstu tilraun til að afla sér lágmarksþekkingar á málefnum? Ég er enn að jafna mig á þessari umræðu. Verstur var Kristinn nema ef vera skyldi þingkona Samfylkingarinnar, Ásta R. Jóhannesdóttir.
Læknaritari

11. Febrúar 2008

Drífa Snædal skrifar: SAMFYLKINGIN SKERÐIR LAUN KVENNA-STÉTTA

...Það er alveg ótrúlegt að horfa upp á það að flokkur með kennir sig við jöfnuð vanvirði heila stétt með þeim hætti sem við höfum orðið vitni að síðustu daga og vikur. Þingmaður flokksins kallaði störf læknaritara „vélritunarstörf" sem sýnir algera yfirborðsþekkingu á störfum læknaritara og skilningsleysi á mikilvægi þeirra innan heilbrigðiskerfisins. Yfirlýstur tilgangur þess að útvista störfum læknaritara frá Landspítalanum er að spara, en vandséð er hvar hægt sé að spara á öðrum stöðum en í launum ritaranna og réttindum þeirra. Ætlar Samfylkingin í alvöru að styðja það að heilbrigðisráðherra skerði laun og réttindi kvennastéttar...?

11. Febrúar 2008

UM ÁBYRGÐ EMBÆTTISMANNA OG STJÓRNMÁLAMANNA


...Ef embættismenn misnota aðstöðu sína bregðast þeir trausti og þurfa þá ekkert síður en stjórnmálamenn að standa skil gerða sinna. Dæmi um þetta eru kaupréttarsamningar sem embættismenn semja um í skjóli myrkurs sjálfum sér til hagsbóta og himinhá laun sem þeir verða sér úti um með baktjaldasamningum....Snemma í vor ákvað ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Skilyrt var að einkaaðili keypti. Geysir Green Energy (GGE), nýstofnað fyrirtæki í orkubransa, var í startholunum að kaupa hlutinn...Stuttu síðar undirrita Geysir Green Energy og Landsvirkjun samkomulag...Var það hluti af áætlun ríkisstjórnarinnar að efla GGE og einkavæðingu orkugeirans...?

10. Febrúar 2008

TILRÆÐIÐ VIÐ ÍSLENSKA VELFERÐAR-KERFIÐ

...Að verða vitni að því að Samfylkingarfólk sem kallar sig félagshyggjufólk og var kosið sem slíkt í síðustu alþingiskosningum, standi í þessu skemmdarstarfi, er í einu orði sagt, ömurlegt!  Það þarf enginn að segja manni að heiðursmaður eins og Össur Skarphéðinsson láti slíkt líðast.  Maður hefði heldur ekki haldið að Jóhanna Sigurðardóttir hefði látið bjóða sér slíkt, en hún virðist vera orðin þreytt og yfirbuguð ...
Úlfur

10. Febrúar 2008

FALLIÐ Á HLUTABRÉFAMÖRKUÐUM OG ORKUGEIRINN


...Þótt tónninn í bréfi Hreins Kárasonar sé gamanasamur, þar sem krafist er afsagnar Hannesar Hólmsteins, frjálshyggjuprófessors, -  hugmyndir hans eigi ekki lengur erindi við samtímann þar sem kennd er stjórnmálafræði heldur  í sagnfræðiskor eða þá bara á þjóðskjalasafni - þá er engu að síður undirliggjandi alvara: Lausnir óheftrar markaðshyggju séu ekki til að reiða sig á fyrir samfélög framtíðarinnar. Að þessu þurfi m.a.  lífeyrissjóðir að hyggja. Þeir geti tapað miklum verðmætum í nánu samkrulli við spilamenn í Casinói heimskapitalismans.  En það er ekki bara í skrifum af þessu tagi sem við erum minnt á fallvaltleikann á hlutabréfamarkaði. Í nýjum skýrslum frá alþjóðamatsfyrirtækjum sem birtar voru fyrir fáeinum dögum er ...

9. Febrúar 2008

SAMFYLKINGIN VAR MEÐ EN ER NÚ Á MÓTI!

Aðeins varðandi það sem þú segir í ágætri grein þinni um að Svandís hafi axlað pólitíska ábyrgð í REI málinu, sem hún gerði ein og óstudd. Nú fara fulltrúar Samfylkingarinnar mikinn í gagnrýni sinni á málsmeðferðina, Dagur B. Eggertsson og Oddný Sturludóttir hafa ítrekað lýst því yfir í fjölmiðlum að Vilhjálmur Þ. hafi ekki haft umboð til að undirrita REI-samninginn, sem lagður var fram á frægum eigendafundi Orkuveitunnar síðastliðið haust. Er ekki rétt munað að fulltrúar Samfylkingarinnar ...
Gísli

9. Febrúar 2008

SÚ SEM AXLAÐI PÓLITÍSKA ÁBYRGÐ

Svandís S og Ráðhusið
...Í Reykjavík skall hurð nærri hælum síðastliðið haust þegar nokkrir fjármálamenn voru í þann veginn að læsa klóm sínum í Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta tókst að stöðva vegna þess að Svandís Svavarsdóttir oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs svaf ekki á verðinum. Hún axlaði sína ábyrgð með sóma og þeim afleiðingum sem allir þekkja. Það tókst að koma í veg fyrir að eignum almennings yrði stolið.  Því miður höfðu þá alltof margir sofið á verðinum. Þar á meðal fulltrúar Samfylkingarinnar.  Þeir steinsváfu. Það skýtur því skökku við, að einmitt úr þeim herbúðum sé nú vegið að Svandísi Svavarsdóttur, hún sé búin að taka af sér boxhanskana og hafi valdið vonbrigðum. Á þessa leið mæltist Katrínu Júlíusdóttur í samtali okkar í þættinum Í vikulokin á RÚV í morgun. Svipaðar yfirlýsingar hafa heyrst frá...

9. Febrúar 2008

VEGIÐ AÐ STARFSHEIÐRI LÆKNARITARA

...Einnig virtist manni á framsögn Ástu Ragnheiðar að hún teldi að nánast hver sem er gæti „vélritað" þessar skýrslur og með því gjaldfelldi hún okkar fullra þriggja anna nám eftir stúdentspróf og sex mánaða starfsþjálfun. Það er þó engin ...Hvað heilbrigðisráðherra viðvíkur veit ég eiginlega ekki hvar ég á að byrja, en í Fréttablaðinu er haft eftir honum að gæði og öryggi skráningar muni mögulega aukast með því að hafa þjónustuna annars staðar en á spítalanum. Tel ég að með þeim orðum ...
Læknaritari á LSH

8. Febrúar 2008

HÓLMSTEINN SEGI AF SÉR

Nú þegar íslenski markaðurinn er nánast hruninn og engar líkur á að hann nái sér á strik, þá er það áfellisdómur fyrir hugmyndafræði Frjálshyggjunnar. Er ekki eðlilegt að Frjálshyggjupredikarar á borð við Hannes Hólmstein, axli ábyrgð og segi af sér prófessorsembætti? Þótt markaðurinn kunni að lagast eitthvað í framtíðinni og þarafleiðandi hagur auðmanna ef þeir halda áfram að fá styrk frá fátæklingum, þá lagar það ekki ...
Hreinn Kárason

8. Febrúar 2008

HVAÐ GERA ÞAU GUÐLAUGUR ÞÓR OG JÓHANNA?

Birtist í Fréttablaðinu 07.02.08.
FB logoTónninn í láglaunahópum samfélagsins er að harðna. Skiljanlega og sem betur fer. Starfsmenn á velferðarstofnunum samfélagsins eru ýmsir við það að gefast upp, bæði vegna óforsvaranlegs álags og lágra launa...Ég er sannfærður um að ef ekki verður samið af raunsæi ...þá mun velferðarkerfið springa í skipulegum og óskipulegum launauppreisnum...

7. Febrúar 2008

UTANDAGSKRÁRUMRÆÐA Á ALÞINGI UM LÆKNARITARA


...Umræðan var fróðleg um margt. Hún sýndi ákveðna pólitíska skiptingu á Alþingi. Annars vegar var Vinstrihreyfingin grænt framboð og Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sem tóku afstöðu með læknariturum, með persónuverndinni og með skattborgaranum. Hins vegar var svo einkarekstrarliðið, Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra að sjálfsögðu, Ágúst Ólafur, varaformaður Samfylkingarinnar , sem er óskaplega upptekinn af því að einkavæðing sé í lagi ef skattgreiðandinn borgar brúsann! Svo voru Frjálslyndir sem höfðu skilning á útvistun eða þannig. Óþægilegast þotti mér að hlusta á mína góðu vinkonu, Ástu R. Jóhannesdóttur, tala niður til læknaritara. Vélritunarstörf mætti...

7. Febrúar 2008

ÉG BIÐST AFSÖKUNAR

Ég skrifaði þér bréf sem birtist hér á heimasíðunni nýlega undir fyrirsögninni, Óviðurkvæmileg fyrirsögn. Þótti mér ekki við hæfi að sýna Samfylkinguna sem drit-skellu sem gekk niður af Sjálfstæðisfálkanum þegar hann var í þann veginn að læsa einkavæðingarklóm sínum í þak Landspítlans, að þessu sinni til að einkavæða störf aðþrengdrar kvennastéttar, læknaritara.  Mér þótti Samfylkingunni gert rangt til, hún myndi aldrei samþykkja slíkt. Þetta taldi ég víst. Í dag hlustaði ég svo á fulltrúa Samfylkingarinnar verja eikavæðingaráform Guðlaugs Þórs heilbrigðisráherra Íhaldsins. Hentistefnan á fullu! Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingarþingkona sagði að...
Grímur

7. Febrúar 2008

TALAÐ AF VANÞEKKINGU UM LÆKNARITARA Á ALÞINGI

...Það var með ólíkindum hvernig sumir starfsbræður þínir á þingi töluðu, það var eins og fólkið hefði ekki nokkurn skapaðan hlut kynnt sér þessi mál. Það veit enginn út á hvað störf læknaritara ganga. Svo segja þau alveg án þess að blikna að það verði engum læknaritara sagt upp! Það er talað niður til okkar og gefið í skyn að við vinnum ekki vinnuna okkar o.s.frv. En enn og aftur þakkir fyrir stuðning þinn.
gb

7. Febrúar 2008

LÆKNARITARAR HAFA EKKI NOTIÐ SANNMÆLIS

...Okkur er gert að leggja á okkur tveggja ára strangt framhaldsnám eftir stúdentspróf til þess að geta kallað okkur læknaritara og svo koma „einhverjir" hrokagikkir úr spítalageiranum og segja hvern sem er geta unnið þetta starf og ætla svo að bjóða vinnuna okkar út til fyrirtækja úti í bæ því það sé hagræðing og sparnaður! Ég þori að fullyrða að svona þjónusta hjá einkafyrirtæki á eftir að verða ríkisgeiranum dýrkeypt. Ef til vill er þetta bara undanfari einkavæðingarinnar á heilbrigðisgeiranum, nú og svo dettur manni í hug að þetta sé eitthvað útspil þar sem samningar eru lausir og það eigi bara að halda þessum „kerlingum" á mottunni. Það eru jú bara...
hp

7. Febrúar 2008

NÚ Á AÐ MAKA KRÓKINN FEITT!

Það er fagnaðarefni að utandagskrárumræðan á þinginu á fimmtudag skuli snúast um útvistun í heilbrigðisgeiranum og málefni LSH. Málið er grafalvarlegt og ótrúlegt að öll umræðan skuli endalaust snúast um það að spara þurfi í launakostnaði. Það vekur furðu mína að aldrei eru nefndar tölur í þessu sambandi. Hver er raunverulegur sparnaður þegar upp er staðið? Hvaða þættir eru tíndir til í þetta módel? Er ekki eitthvað að gleymast? Hver trúir því að...
Rúna R. Hilmarsdóttir

6. Febrúar 2008

ÓVIÐURKVÆMILEG MYNDSKREYTING

Ómaklega þótti mér vegið að heiðri Samfylkingarinnar í myndskreytingu með pistli þínum um einkavinavæðingu Íhaldsins á Landspítalanum. Ekki trúi ég öðru en þingmenn Samfylkingarinnar rísi upp og stöðvi einkavæðingarherferð Guðlaugs Þórs, heilbrigðisráðherra. Að Samfylkingin verði eins og drit úr fálka Sjálfstæðisflokksins í þeim slag hef ég miklar efasemdir að muni gerast þótt...
Grímur

6. Febrúar 2008

BOGI OPNAR GLUGGANN


...Í fyrsta þætti Boga Ágústssonar í röð þátta þar sem hann ræðir við ýmsa erlenda menn sat utanríkisráðherra Noregs fyrir svörum. Ýmislegt athyglisvert kom þar fram sem snertir samskipti Íslands og Noregs. Þá þótti mér athyglisvert hve afdráttarlaus Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra, var gagnvart innrásinni í Írak. Vafningalaust lýsti hann því yfir að Norðmenn styddu ekki Bandaríkjamenn í Írak. Svona talar ekki íslenskur sósíaldemokrat. Ekki Ingibjörg Sólrún. Ef til vill kynni hún að gera það í ríkisstjórnarsamstarfi við Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Þá væri hún í svipaðri stöðu og norski Verkamannaflokkurinn sem er í ...

6. Febrúar 2008

SKILGREINING Á VALDARÁNI

Í forsíðufrétt Morgunblaðsins þann 6. janúar, kemur fram að lífeyrissjóðir landsmanna eru ennþá að binda fé sitt í fallandi hlutabréfum. Það er ágætt fyrir Jón Ásgeir en vont fyrir lífeyrisþega. Allir fjárfestar með vit í kollinum, eru löngu farnir ... Meðferð þessarra peninga og pukrið og vinavæðingin í kringum þessa gjörninga alla, minna á orð Sverris Hermannssonar í svipuðu samhengi: Þetta er verra en glæpur, þetta er heimska.
Hreinn Kárason

5. Febrúar 2008

Helgi Guðmundsson skrifar: LÁTUM VERKIN TALA

... „Umhverfisverndarsinninn" vill líka mislæg gatnamót við Kringluna, þrátt fyrir eindregin mótmæli íbúa á svæðinu. Þegar verkin „fara að tala" á þeim slóðum mun undir eins koma í ljós að þau þurfa líka að tala við Lönguhlíð, sennilega einnig við Sóleyjargötu að ekki sé minnst á ósköpin sem gerast munu við Suðurgötu og Hringbraut. Eitt A-5 blað dugir nefnilega ekki til að greina þann vanda sem óheyrileg einkabílaumferð hefur í för með sér vestur alla Miklubraut og Hringbraut...

5. Febrúar 2008

ÆTLA AÐ FYLGJAST MEÐ SAMFYLKINGU Á FIMMTUDAG

...Ég tek undir með þér hér á síðunni þegar þú vekur athygli á því að „handlangarar" Guðlaugs Þórs á Landspítalanum eru sjálfir vel haldnir í launum en láta sig hafa það að níðast á láglaunafólki til að þjóna pólitískum herrum sínum. Aumast er þó hlutskipti Samfylkingarinnar, músarinnar sem þegir á meðan ranglæti er í frammi haft. Verður það enn í umræðunni á Alþingi á fimmtudag?
Sunna Sara

5. Febrúar 2008

SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR UNDIRBÝR EINKAVINAVÆÐINGU Á LANDSPÍTALA


...Formúlan er pottþétt: Skattgreiðandinn borgar. Síðan er bara spurningin um að komast í aðstöðu til að maka krókinn. Um það sér Sjálfstæðisflokkurinn. Það verður spennandi að skoða listann yfir þá sem vilja komast yfir nýjasta „útvistunarpakkann" frá LSH. Hve margir skyldu bera sjálfstæðisfálkann við brjóst sér? Eða appelsínugula merkið frá Samfylkingunni? Sá flokkur sem mælist stór nú um stundir reynist þegar á hólminn kemur vera agnarmár. Pínulítil sál sem leyfir  spillingunni að hafa sinn gang með þögn sinni. Sú þögn hlýtur að vera hávær í eyrum einhverra kjósenda þess flokks...

4. Febrúar 2008

BJÖRGUNARSVEITIR VERÐI ÓEIRÐALÖGREGLA?

Er ríkisstjórnin að verða galin? Heyrði ég það rétt að dómsmálaráherrann vilji gera björgunarsveitirnar að einhverjum baksveitum fyrir lögreglu til að berja niður óeirðir? Það var gott að heyra í talsmanni Landsbjargar sem vísaði þessu út í hafsauga og sagði að sveitirnar væru til að bjarga og hjálpa fólki en ekki til að berja á því. Hvers vegna er ríkisstjórnin farin að óttast óeirðir? Er það vegna þess að ...
Haffi

4. Febrúar 2008

HVAÐ SEGJA UMÖNNUNARRÁÐHERRAR UM LAUNAKJÖRIN OG KJARASAMNINGA FRAMUNDAN?


...Ég sakna þess að þeir ráðherrar, sem fara með heilbrigðismál og félagsmál, þau Guðlaugur Þór Þórðarson og Jóhanna Sigurðardóttir, séu spurð á sama hátt og menntamálaráðherra um starfsfólk skólanna, hvað þeim finnist um þau laun, sem  starfsfólki á dvalarheimilum aldraðra, sjúkrahúsum og stofnunum fyrir fatlaða eru greidd. Ætla þau að beita sér þessu fólki til framdráttar? Ég er sannfærður um að ef ekki verður samið af raunsæi við starfshópa innan þessara geira, sem búa við ófullnægjandi kjör þá mun kerfið springa í skipulegum og óskipulegum launa-uppreisnum fyrr eða síðar. Tónninn í láglaunahópum er að harðna. Skiljanlega og...

3. Febrúar 2008

ÞAR FÚNUÐU EKKI FJÁRMUNIR FÁTÆKRA


...Eitt varð mér til umhugsunar og þess valdandi að ég setti þessar línur niður. Það var sú áhersla sem Kristleifur leggur á það hvernig Deildartungufólkið efnaðist. Hann rekur hvernig Vigdís Jónsdóttir og Hannes Magnússon, sem bjuggu í Deildatungu undir lok 19. aldarinnar, amma og afi Andrésar, sem nú var til grafar borinn,  reyndust vel þeim sem áttu í erfiðleikum. Deildartungufólkið  segir hann, hafi komist í álnir með vinnusemi, „með heiðarlegu starfi" en þess hafi jafnan verið gætt að forðast „kaupsýsl og brask."  Deildartungumenn hafi notið „ maklegs lofs fyrir  það hve vandir þeir voru að virðingu sinni í því að hið fengna fé væri vel til komið. Í sjóðum þeirra fúnuðu ekki fjármunir fátækra." Vel sagt. Umhugsunarvert fyrir okkar samtíð.

3. Febrúar 2008

FERÐ ÁN ENDURKOMU


Hvers vegna skyldi myndlistarsýning Sigrid Valtingojer, sem nú stendur yfir í Gallerí Start Art, Laugavegi 12 í henni Reykjavík, bera þetta heiti? Það upplýsist þegar komið er á sýningu listakonunnar sem ég hvet alla til að sjá. Árið 2003 fór Sigrid Valtingojer til Palestínu, ferðaðist þar um og sinnti starfi í þágu hernumdrar þjóðar. Sigrid var um nokkurra vikna skeið á hernumdu svæðunum áður en hún sneri aftir til Íslands. Eða hvað? Í reynd kom hún ekki aftur sem söm manneskja. Í reynd er Sigrid Valtingojer...

3. Febrúar 2008

Jón Torfason skrifar: UPPBYGGING VIÐ LAUGAVEG

...Í sambandi við þennan kostnað, sem fyrrverandi borgarstjóri og sálufélagar hans hneykslast svo mjög yfir skal fyrst rifjað upp að þeir eru nú engir sérstakir sparnaðarpostular....Þetta eru aðeins fáein dæmi en af nógu er að taka. Æ fleirum er að verða ljóst að þessi niðurrifsstefna R-listans og Sjálfstæðisflokksins er úrelt og leiðir til ófarnaðar þegar til lengri tíma er litið. Það er fagnaðarefni að atburðir síðustu daga, hvaða skoðanir sem menn hafa á þeim að öðru leyti, gefa góðar vonir um að í borgarstjórn Reykjavíkur náist meirihluti fyrir því að hverfa frá niðurrifinu en farið verði að sinna betur um byggingarsögulegan menningararf landsmanna.

2. Febrúar 2008

EINOKUNARVERSLUNIN Á VORUM DÖGUM!

...Ég verð að segja að ég er heilshugar sammála Hreini Kárasyni sem skrifar um fjárfestingar lífeyrissjóða launamanna, á vefsíðunni þinni. Ég vil þó bæta við að ég sé ekkert rangt við að ákveðið hlutfall fjárfestinganna fari beint í félagsaleg sameignarfyrirtæki verkalýðsins, einmitt þeirra sem eiga lífeyriðssjóðina. Hér mætti nefna...Spurningin er hvar nú sé að finna staðgengill Skúla Magnússonar Fógeta til að tukta græðgishyskið til, eða að reka það af ...
Úlfur

2. Febrúar 2008

PÓLITÍSKT GÓÐVERK


Egill Helgason á lof skilið fyrir viðtalsþátt sinn við slóvenska heimspekinginn  Slavojs Zizek  í þætti sínum Kiljunni í vikunni. Hið góða við viðtalið var krafturinn, hugmyndaauðgin og skemmtilegheitin sem þar birtist. Með viðtali af þessu tagi er unnið pólitískt góðverk á þjóðinni. Hún sofnar ekki undir Zizek heldur glaðvaknar. Það er ekki  bara gott. Það er lífsnauðsynlegt! Um margt var ég sammála Zizek, um annað síður. Ólíkur uppruni okkar Zizeks skýrir hugsanlega sumt í mismunandi sýn. Þannig fannst mér Zizek ýja að því að vinstri sinnar hefðu á tíunda áratug síðustu aldar verið býsna nærri Fukuyama hinum japanska,  sem boðaði endalok sögunnar með „sigri" kapitalismans á kommúnismanum; ágreiningur væri þar með úr sögunni. Úrlausnarefni mannkynsins yrðu hér eftir engin sem flokka mætti undir „söguleg" átök heldur aðeins ákvarðanir á markaðstorginu...

1. Febrúar 2008

UM FJÁRFESTINGAR LÍFEYRISSJÓÐA

Samkvæmt lögum er lífeyrissjóðum skylt að leita ávallt hámarksávöxtunar sem yfir langan tíma litið er einnig krafa um að lágmarka áhættu. Hlutabréfakaup eru varasamur bissniss, einkum ef hlutafélögum er stýrt af áhættusæknum aðilum. Lífeyrissjóðum ber engin skylda til að fjárfesta í slíkum félögum. Þeim ber heldur engin skylda til að fjárfesta í hlutafélögum sem greiða forstjórum sínum ofurlaun, sem líta út sem...
Hreinn Kárason

1. Febrúar 2008

BEÐIÐ UM YFIRVEGAÐAN LEIÐARA

Birtist í Fréttablaðinu 31.01.08.
FB logo...Með öðrum orðum deilan snýst um varanlegan eignarrétt á sjávarauðlindinni og heimildum til að hún gangi kaupum og sölum á grundvelli einkaeignarréttar. Þorsteinn Pálsson segir að Mannréttindanefndin byggi "röksemdafærslu sína á því að fiskimiðin séu samkvæmt íslenskum lögum sameign þjóðarinnar. Öðru máli kynni því að gegna ef svo væri ekki. Ráða má af þessu að leysa megi málið með því einu að fella svokallað sameignarákvæði út." Fróðlegt væri að fá nú nýjan og yfirvegaðri ritstjórnarpistil eftir sama höfund þar sem hann skýrði það fyrir okkur hvers vegna...

31. Janúar 2008

Einar Ólafsson skrifar: EKKI ÞÖGN HELDUR AÐGERÐIR

...Fyrirhugað er að bjóða út starfsemi læknaritara. Og sitthvað annað er í bígerð, eða hafið, sem almenningur veit ekkert um. Bloggsíðurnar loga út af borgarstjórn og skipun dómara. Gott og vel. En ekkert um þetta. Samtök heilbrigðisstarfsfólks segja ekkert (sumir eru kannski að vonast til að komast á jötuna, en það verða víst fæstir), samtök sjúklinga segja ekkert, hvað þá almenningur. Það er helst að eitthvað heyrist frá BSRB (ég vil minna á bækling Görans Dahlgren, Opinber eða einkarekin heilbrigðisþjónusta, sem BSRB gaf út) - auk Vinstri grænna, en þaðan heyrist líka alltof lítið. Ef einhvern tíma var þörf aðgerða, þá er það nú...

31. Janúar 2008

EGIL Á KASTLJÓSTÍMA!

Það var gaman að hlusta á heimspekinginn Zizek ræða hugðarefni sín í Kiljunni í gær. Framsetning öll var mjög hröð og allt lagt undir...Kiljan er án efa besti fjölskylduþáttur sem sjónvarpið býður uppá og mætti vera á kastljóstíma til að mæta betur þörfum yngri aðdáenda.
Bjarni

31. Janúar 2008

ÞÖRF Á LÝÐRÆÐISLEGRI UMRÆÐU UM UTANRÍKISMÁL


...Ég hef oft kvartað yfir því á liðnum árum hve lítil umræða hefur farið fram um tengsl Íslands við umheiminn, Alþjóðabankann, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Alþjóðaviðskiptastofnunina og aðrar fjölþjóðlegar stofnanir sem við eigum aðild að. Á vettvangi þessara stofnana hefur oft verið haldið fram viðhorfum í nafni íslenskrar þjóðar án þess að nokkur stefnumótandi vinna hafi farið fram á Alþingi um þessi skilaboð sem send eru út í heim í okkar nafni...Þetta kemur upp í hugann vegna umræðunnar á Alþingi í dag en einnig vegna hugrenningartengsla eftir að lesa stórgott Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins um síðustu helgi. Í þessu Reykjavíkurbréfi er...

25. Janúar 2008

Finnur Dellsén skrifar: HERSHÖFÐ-INGJAR NATO VILJA BEITA KJARNORKU-VOPNUM AÐ FYRRA BRAGÐI

Nýjustu fréttir af vettvangi Atlantshafsbandalagsins eru þær að nokkrir af valdamestu hershöfðingjum bandalagsins boða beitingu kjarnorkuvopna til að „uppræta hryðjuverk". Hershöfðingjarnir ætlast til þess að þessi nýja stefna verði samþykkt á NATO-þingi í apríl. Þar verða fulltrúar íslenskra stjórnvalda, og þar fá Íslendingar tækifæri til að mótmæla stefnu sem þessari. Að vísu hefur NATO aldrei útilokað að beita kjarnorkuvopn að fyrra bragði, þótt þetta sé líklega í fyrsta skipti í áraraðir sem valdamiklir menn innan bandalagsins vilja beinlínis gera það hluta af opinberri stefnu bandalagsins. Réttast væri auðvitað að hin nýja kjarnorkustefna hershöfðingjanna yrði...

25. Janúar 2008

INNSÝN Í RANGLÁTT KVÓTAKERFI

Aðalsteinn Baldurssson, formaður Matvælasviðs Starfsgreinasambandsins, hefur gengið fram fyrir skjöldu og krafist raunverulegra mótvægisaðgerða til varnar fiskvinnslufólki sem nú missir unnvörpum atvinnu sína vegna samdráttar í fiskvinnslunni. Hundruð einstaklinga hafa þegar misst vinnuna eða munu gera það á næstunni um lengri eða skemmri tíma...Atburðir síðustu daga hafa enn einu sinni fært okkur heim sanninn um hvar völdin liggja í sjávarbyggðunum. Þau liggja hjá handhöfum kvótans. Á þeirra valdi eru örlög sjómanna, fiskvinnslufólks og einnig heilla byggðarlaga. Allir vita að sjávarútvegsfyrirtækin, hvort sem er í útgerð eða fiskvinnslu eru mörg hver verulega skuldsett og þar með veðsett. Hvað þýðir það? Það þýðir að ef...

25. Janúar 2008

HEFUR VG FENGIÐ FATASTYRKI?

...Ég er gáttuð á fréttum af fatastyrkjum og sporslum til stjórnmálamanna og þykir mér augljóst að þeir verði að gera grein fyrir sínum málum, ekki bara Björn Ingi Hrafnsson, sem allir einblína á, heldur aðrir stjórnmálamenn einnig. Á baksíðu DV kom fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefði einnig fengið fatapeninga án þess þó að upplýst væri hve mikið þetta væri. Hafa stjórnmálamenn VG þegið ...
Hafdís

25. Janúar 2008

AF HEILUM HUG

Birtist í Morgunblaðinu 24.01.08.
MBL  - Logo...Ég þakka Niels fyrir að veita opinberlega svör við spurningum mínum þótt þau séu í stikkorðastíl og kalli fyrir bragðið á nánari skýringar sem fulltrúar SFR og BSRB munu ganga eftir í viðræðum við stjórnendur sjúkrahússins á komandi dögum. Ég vil ítreka það sem ég hef áður bent á í blaðagreinum að stjórnendur á Landspítala hafa gefið frá sér afar misvísandi yfirlýsingar varðandi framtíð læknaritara, nokkuð sem augljóslega þarf að fá botn í. Eitt atriði í svari Nielsar Chr. Nielsen í umræddri grein tel ég ástæðu til að staldra við en það er skírskotun hans í fund sem forsvarsmenn LSH héldu til kynningar á útboðsgögnum. Á þennan fund mættu tugir læknaritara. Niels segist svo frá...

25. Janúar 2008

HVAÐ FÉKK BINGI Í BAKIÐ?

...framganga Guðjóns Ólafs var eins og við mátti búast... en hvað skyldi Björn Ingi hafa fengið í bakið? Víst er að ekki var það venjulegt þursabit. Og þar sem mér þykir mikill sjónarsviptir að Birni Inga Hrafnssyni úr pólitíkinni tel ég fulla ástæðu til þess að bakmein hans verði skoðað miklu betur en gert hefur verið. Þá er ekki ólíklegt að fleiri stjórnmálamenn þurfi einnig á bakeftirliti og rannsóknum að halda...
Þórður

24. Janúar 2008

SÝNUM ANDSTÖÐU VIÐ RÁÐHÚSIÐ

...Það er kaldhæðni örlaganna að daginn sem við fögnum því að 100 ár eru liðin frá því konur tóku fyrst sæti í borgarstjórn skulu borgarbúar horfa upp á ósvífnasta valdabrölti karla um langt skeið. ...Góðu fréttirnar og reyndar þær stærstu finnst mér vera sú mikla samstaða sem Vinstri græn, Samfylking, Framsókn og Margrét Sverrisdóttir hafa sýnt. Þau koma fram sem ein heild þrátt fyrir erfiða tíma og er ég sannfærð um að þáttur Svandísar Svavarsdóttur sé mikill í þessari samtöðu. Ég get sagt fyrir mitt leyti að ég mun mæta í Ráðhúsið til að sýna andstöðu mína á í dag...
Guðrún Sveinsdóttir

23. Janúar 2008

NÝR MEIRIHLUTI OG DAGAR LANGRA HNÍFA

...Síðan er það hnífafólkið. Mér sýnist fleiri en Guðjón Ólafur með hnífasett í bakinu. Óheilindin grassera, hnífsstungur, ósannindi og óheilindi. Er þetta Reykjavík í dag? ...myndin sem ég sendi þér segir það sem segja þarf...
Þorgrímur

22. Janúar 2008

FORSETI ALÞINGIS LEIÐRÉTTUR

Birtist í Morgunblaðinu 21.01.08.
MBL  - Logo...Skilja mætti á grein Sturlu Böðvarssonar að hann einn hafi haft áhuga á breyttum þingsköpum. Staðreyndin er sú að flestir þingflokkar hafa sett fram tillögur í þá veru. Sumar þeirra hafa náð fram að ganga en aðrar ekki. Þannig hefur þingflokkur VG t.d. ítrekað lagt fram hugmyndir um að efla fagleg vinnubrögð á þinginu, gera þinghaldið markvissara, opna störf þess meira en nú er, lengja þingtímann, færa næturfundi inn á dagtímann og stytta ræðutíma í tengslum við slíkar breytingar. Stigið var skref í þessa átt með nýjum þingskapalögum en að okkar mati um of á forsendum stjórnarmeirihlutans. ...

19. Janúar 2008

HIN ÞÖGLU SVIK

Birtist í Fréttablaðinu 18.01.08.
FB logo...Þögn og afskiptaleysi fela í sér afstöðu. Þögn er sama og samþykki segir gamalt máltæki. „Þau eru verst hin þöglu svik, að þegja við öllu röngu", segir í þýðingu Bjarna Jónssonar frá Vogi á gömlu kvæði eftir norska skáldið Arne Garborg. Það eru orð að sönnu. Hvað skyldi kjósendum Samfylkingarinnar finnast um flokkinn sem þeir kusu, hinn þögla félaga þeirra Geirs og Guðlaugs Þórs í ríkisstjórninni...?

18. Janúar 2008

HVER BER ÁBYRGÐ Á BILUNUM?

Mig langar til að byrja á að þakka þér fyrir allt gamalt og gott og ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Þinghaldið byrjar vel á nýju ári: Árni Þór hóf leikinn með breiðsíðuárás á fjármálaráðherrann og fer mjög faglega að. Við borð liggur að maður kenni dálítið í brjósti um þennan gæfulitla hrossalækningameistara. Erindi mitt að þessu sinni er reyndar þessi einkennilega frétt Morgunblaðsins í gær um að Sultatangavirkjun sem ku framleiða ein 120 megavött er óstarfhæf um þessar mundir og er talið að ...
Guðjón Jensson

16. Janúar 2008

EINKAVÆÐINGIN Á LANDSPÍTALANUM

Birtist í Morgunblaðinu 15.01.08.

...Læknaritarastarfið er eitt af lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu. Persónuverndarsjónarmið og krafa um góða fagmennsku eru þar grundvallaratriði. Læknaritarar vilja að sjálfsögðu koma að endurskipulagningu á verksviði sínu ef um slíkt ætti að vera að ræða. Furðu sætir að stjórnendur á LSH skuli sýna starfsstéttinni þá framkomu sem raun ber vitni...

15. Janúar 2008

ÞÖGLI FÉLAGINN

Birtist í Fréttablaðinu 14.01.08.
Öllum er nú að verða ljóst hvert stefnir á sviði heilbrigðismála. Sjálfstæðisflokkurinn er að komast á fullan skrið með að hrinda heilbrigðisþjónustunni út í einkarekstur. Skoðanakannanir hafa sýnt að þessi stefna nýtur ekki stuðnings þjóðarinnar. Þess vegna er beitt gamalkunnri aðferð: Við erum að gera tilraun með útvistun á starfi læknaritara, segja fulltrúar heilbrigðisráðherra á Landspítala, og að tilrauninni lokinni verður allt ferlið vegið og metið faglega og saglega. Allir vita að eftir að einkafyrirtæki verða búin að koma sér upp starfsemi með aðstöðu og mannahaldi verður illmögulegt að snúa til baka. Þetta eru sömu óheiðarlegu vinnubrögðin og endranær. Þannig er framlag til...

14. Janúar 2008

ER HÆGRI SINNAÐUR MÁLFLUTNINGUR AÐ FÆLA FÓLK FRÁ SAMFYLKINGUNNI?

...Getur verið að Árni Páll ætti að færa sig yfir í Sjálfstæðisflokk eða er Samfylkingin virkilega orðin svona hægri sinnuð? Spyr sú sem ekki veit. Mér fannst Árni Páll vera að segja að framtíðin væri áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar um ókominn tíma. Ef svo er þá spyr ég hvort það sé ekki ráð fyrir félagslega þenkjandi kjósendur Samfylkingarinnar að færa sig um set og flytja sig yfir í Vinstrihreyfinguna grænt framboð?
Sunna Sara

13. Janúar 2008

BRESTIR INNAN STJÓRNARFLOKKANNA?

Í 24 Stundum lýsir Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, því yfir að honum líði vel í ríkisstjórninni. Í Silfri Egils lýsir Ragnheiður E. Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, því yfir að sér líði afar vel í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ... Hefur þú skýringu á því Ögmundur, hvers vegna stjórnarsinnar eru svona uppteknir af því að tala um vellíðan sína í ríkisstjórn?
HaffI

13. Janúar 2008

RITSTJÓRI FRÉTTABLAÐSINS BLÆS Á ÞJÓÐARSAMSTÖÐU Í ALBANÍULEIÐARA

Torsteinn albania
...Í reynd er hann að segja við ríkisstjórnina: Hættið að leita eftir samstöðu með þjóðinni, þið hafið völdin, nýtið þau eftir eigin höfði. Þeir sem staðið hafa í þeirri trú að yfirvegun og víðsýni einkenni skrif Þorsteins Pálssonar þurfa að endurmeta þá afstöðu sína. Síðan er hitt umhugsunarvert, hvort þessi áhugamaður um samstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar beri einhvern kvíða í brjósti þessa dagana og sjái ástæðu til að stappa stálinu í sína menn....Hvern er verið að skamma? Væntanlega þann aðila sem helst hefur tjáð sig í þá veru sem hér er vísað til, nefnilega Seðlabanka Íslands og stjórann þar á bæ, Davíð Oddsson. Þetta kölluðu menn í gamla daga að skamma Albaníu...

12. Janúar 2008

AÐFERÐAFRÆÐIN VIÐ EINKAVÆÐINGU HEILBRIGÐISKERFISINS

.Birtist í Morgunblaðinu 11.01.08.
...Ég spurði hvers vegna mér væri ekki vísað á Landspítalann. Læknirinn spurði þá hvort ég vildi heldur fara þangað. Ég játti því og minnti hann á að ákvörðun hans hefði ekki aðeins verið læknisfræðileg heldur jafnframt efnahagsleg og pólitísk.
Dómus hafði einfaldlega slegið lán fyrir hinu dýra tæki, þangað var síðan leitað um þjónustu, jafnvel af helstu sjúkrahúsum landsins. Málið var í höfn - á kostnað skattborgarans! ...Það sem ég er að færa rök fyrir er að sú formúla sem við höfum komið okkur upp hér á landi er kjörin til einkavæðingar ef yfirstjórn heilbrigðismála í samvinnu við fjárveitingarvaldið er á þeim buxum. Formúlan er þessi: Skattgreiðandinn borgar óháð rekstrarformum sem búa öll við sambærilega réttarstöðu. Síðan er ...

11. Janúar 2008

Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: AÐ TAKA ÁBYRGÐ Á EIGIN GJÖRÐUM

...Nú bíða menn þess að auðvaldið kalli á hjálp, vilji meiri ívilnanir og skattalækkanir sér til handa. Eitt kunna hinir ríku nefnilega ekki og það er að taka ábyrgð á sjálfum sér. Þeir eru hins vegar óþreytandi að halda fram mikilvægi þess að launafólk sýni ábyrgð. Slíkt tal magnast jafnan í aðdragana kjarasamninga.
Og einmitt nú eru samningar að hefjast. Veslings hagfræðingarnir sem nú hafa með höndum það hlutverk að vernda herra sína jafnframt því að telja kjarkinn úr verkafólki. Í öðru orðinu reyna þeir að kjafta upp hlutabréfin og í næstu setningu segja þeir að allt sé að fara fjandans til...

11. Janúar 2008

HELDUR FJÁRMÁLARÁÐHERRA AÐ VANDINN HVERFI MEÐ ÞVÍ LOKA AUGUNUM?


...Heldur Árni Mathiesen að málið sé þar með út af borðinu? Að sjálfsögðu ekki. Vandinn sem við blasti á vaktavinnustöðum árið 2005 hefur vaxið en ekki minnkað.Hann er sá að sífellt erfiðara reynist að ráða fólk til starfa þar sem fólk þarf að vinna á öllum tímum sólarhrings, svo sem innan löggæslu, í heilbrigðisstofnunum, á dvalarheimilum aldraðra og í stofnunum sem sinna fötluðum. Bókunin í kjarasamningunum 2005 var gerð til þess að reyna að finna lausn á raunverulegu vandamáli. Verkefnið hverfur ekki þótt fjármálaráðherra og hans lið gefist upp. Kröfurnar verða á samningaborðum aðildarfélaga BSRB og BHM þegar samningar losna með vorinu. Fjármálaráðherra er hins vegar að glutra niður tækifæri til að taka á vandanum á heildstæðan hátt og búa jafnframt í haginn fyrir komandi kjarasamninga. Þetta kalla ég að...

9. Janúar 2008

VEGIÐ AÐ STARFSHEIÐRI LÆKNARITARA

Mig langar bara að þakka þér Ögmundur fyrir góða grein þína varðandi læknaritara, ekki veitir okkur af stuðningi. Ég hef verið læknaritari alla mína starfsævi og finnst mjög vegið að mínum starfsheiðri með þessari framkomu...
Læknaritari

9. Janúar 2008

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN BYRJAÐUR AÐ EINKAVÆÐA HEILBRIGÐISKERFIÐ

Birtist í Morgunblaðinu 08.01.08.
Á Landspítala er nú unnið að því að einkavæða störf læknaritara. Taldi ég mig hafa fyrir satt að núverandi heilbrigðisráðherra hefði látið þau boð út ganga við embættistöku sína að þar sem því yrði við komið ætti starfsemi sem heyrði undir hans ráðuneyti að vera einkarekin. Á þessu vakti ég athygli á Alþingi en þá brá svo við að ráðherra kvað þetta vera hina mestu firru, hann hefði aldrei látið neitt slíkt út úr sér. Skrítið, því þetta er stefna Sjálfstæðisflokksins, flokks Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra....

8. Janúar 2008

ÞAKKA STUÐNING

Sem læknaritari á Landspítala vil ég þakka þér fyrir þína góðu grein hér á heimasíðunni og stuðning við málstað læknaritara...
Læknaritari á Landspítala

7. Janúar 2008

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar: ER FÓLK FYRIR?

Nú stefnir í að kollvarpa eigi starfsumhverfi og réttindum læknaritara á Landspítala háskólasjúkrahúsi án nokkurs samráðs við stéttina. Ekki kemur á óvart að einkavæðing stéttarinnar sé auglýst í boði „skilvirkni" og „hagræðingar". Þetta er sama lumman og endurtekin hefur verið í hverju einasta einkarekstrar- og einkavæðingarmáli undanfarin ár. Er ekki löngu kominn tími til að sjá í gegnum þessar þreyttu tuggur og auglýsingabrellur „skilvirkra hagræðinga", brellur sem fela hinar grafalvarlegu staðreyndir, eins og til dæmis það að þetta vegur gróflega að fólkinu í landinu? Hvers eiga læknaritarar að gjalda?

7. Janúar 2008

AÐ LIFA TÍUNDA HLUTA ÍSLANDSSÖGUNNAR

Grimshagi
Merkilegt að finna fyrir nið tímans. Það fannst mér ég gera við útför móðursystur minnar Sigríðar Ö. Stephensen frá Hólabrekku á Grímstaðaholti í Reykjavík í dag. Sigríður lifði heila öld. Hún var fædd í mars árið 1908 og átti tæpa þrjá mánuði í að hafa lifað  í rétt hundrað ár. Líf hennar spannar því nær tíunda hluta Íslandssögunnar. Um Sigríði skrifar systursonur hennar, Björn Jónasson í Morgunblaðið í dag: „Sigríður, var borinn og barnfæddur Reykvíkingur, fæddist í Hólabrekku og bjó þar í næstum heila öld. Hennar bær var Reykjavík, borgin sem hún horfði á breytast úr smábæ í volduga borg. Og hennar öld var tuttugasta öldin. Öldin sem breytti Íslandi meir en nokkur öld hafði gert áður. Öld sjálfstæðis, öld stríða, öld síma og samgöngubyltingar, öld vatnsveitu og nýrra viðskipta- og atvinnuhátta."

7. Janúar 2008

ÚTVISTUN Á STÖRFUM LÆKNARITARA

...Þannig hefur komið í ljós að sá aðili sem mestan áhuga hefur sýnt þessu verkefni er fjárfestingarsamsteypan Veritas Capital sem er eignahaldsfélag umboðs- og lyfjadreifingarfyrirtækja. Er það snjöll ráðstöfun að fela lyfjafyrirtækjum, eða aðilum sem þeim eru tengd, að annast sjúkraskýrslur á stærsta sjúkrahúsi landsins? Svari hver fyrir sig. Ég er hræddur um að Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra komist ekki hjá því að svara Hann komst upp með að þegja þegar hann var inntur eftir þessu á þingi fyrir þinghlé en á bak við þögnina getur ráðherrann ekki skýlt sér lengur.þessari spurningu á Alþingi þegar þing kemur saman.

6. Janúar 2008

FRAMTÍÐ FORSETAEMBÆTTISINS

...Ég tel að ekki eigi að einskorða umræðuna við það hve lengi forseti situr heldur hvert við viljum að verði inntak embættisins. Mín skoðun er sú að hið pólitíska hlutverk eigi að hvíla hjá Alþingi og ríkisstjórn sem starfar í umboði  þess. Embætti forseta Íslands eigi fyrst og fremst að þjóna menningarlegu hlutverki. Forseti eigi að tala máli lands og þjóðar, halda á loft gildum sem sameina, styrkja okkur og efla sem þjóð. Þetta hefur núverandi forseti iðulega gert prýðilega. Sem áður segir hef ég hins vegar gagnrýnt þegar mér hefur þótt forseti vor ganga of langt, fyrir minn smekk , inn í auðmannafaðminn. Það faðmlag er varasamt í heimi þar sem auðmagnið er að færa sig upp á skaftið gagnvart samfélaginu, ásælist eignir þess og völdin yfir því. Grímur Thomsen hefði...

6. Janúar 2008

STÓR EN JAFNFRAMT SMÁ

Birtist í 24 stundum 05.01.08.
Tveir alþingismenn kvöddu sér hljóðs í síðustu viku til þess að ræða sérstaklega um stjórn og stjórnarandstöðu. Annar er þingmaður Samfylkingarinnar og heitir Helgi Hjörvar. Hinn er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og heitir Geir H. Haarde. Annar skrifaði grein í 24 Stundir, hinn lét ljós sitt skína í maraþonviðtali á Rás 2. Báðir voru þeir óskaplega ánægðir með ríkisstjórnina sína og báðir lýstu óánægju með stjórnarandstöðuna. Hvor á sinn hátt þó....

5. Janúar 2008

EIGA EKKI LANDEIGENDUR AÐ STÖÐVA LÖGBROTIN?

Gætu landeigendur við neðri hluta Þjórsá ekki bara risið upp sjálfir og látið lögreglu stöðva þetta tafarlaust? ...
Jón Þórarinsson

4. Janúar 2008

UM ENDURSKOÐUN UMFERÐARLAGA

...Að endingu vil ég lýsa ánægju minni yfir því ef umferðarlagasektir verða tekjutengdar, eins og samgönguráðherra íar að. Þar þarf þó að vanda sig, því það er ekki nóg að seðlabankastjóri eða útvarpsstjóri borgi tíu sinnum hærri sekt en lífeyrisþegi, því lífeyrisþeginn er varla borgunarmaður fyrir sektinni á meðan hinir taka varla eftir því að örlítið minna hefur safnast í sparibaukinn. Það nægir því ekki að fara eingöngu eftir tekjunum, heldur þarf líka að taka tillit til þess hvað sektin kemur illa við þann seka. Ég vona svo sannarlega að VG verði samgönguráðherranum innan handar að lagfæra umferðarlögin og bæta þá hörmulegu umferðarmenningu sem við búum við á Íslandi.
Sigurjón

4. Janúar 2008

FORMAÐUR SJÓMANNASAMBANDSINS: EINKAVÆÐING ÖRYGGISEFTIRLITS TIL ILLS


Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands kom fram í fréttum í dag og kvað hann sér vera verulega brugðið að heyra hversu illa öryggismálum væri komið um borð í íslenskum bátum og skipum. Sævar sagðist óttast að eftirlitið hefði slaknað eftir að skipaskoðun fór frá Siglingastofnun til einkafyrirtækja...Röksemdir Sævars Gunnarssonar eru skýrar: Það fer ekki saman að græða á öryggiseftirliti og sinna því sem skyldi. ...Rafmagnsöryggiseftirlit var einkavætt á Íslandi fyrir nokkrum árum með hörmulegum afleiðingum. Ég var í hópi þeirra sem mótmæltu hvað ákafast. Sagði að öryggiseftirliti myndi hraka, það kæmi til með að hafna í fákeppni, flytjast af landsbyggð til Reykjavíkur og yrði dýrara fyrir skattborgarann. Allt þetta gekk eftir og væri fróðlegt að rannsóknarfréttamenn færu í saumana á því máli...

3. Janúar 2008

ENDURSKOÐUN LAGA UM FORSETA ÍSLANDS

Lög um forseta Íslands eru rýr; það er auðvitað fyrst og síðast stjórnarskráin sjálf. Ákvæðin þar um forsetann þarf að endurskoða af því að mörg þeirra eru úrelt of fjarstæða og hafa í raun alltaf verið.Svo er það kjörtímabilið. Rökin fyrir því að takmarka embættistíma forseta Íslands eru að einhverju leyti komin fram. Hugmyndin um sex plús sex ár  sem Steingrímur J. Sigfússon nefnir er þekkt. En hver eru rökin? Jú, rökin eru þau að ...
NH

3. Janúar 2008

BINDINDISMANNI BREYTT Í TAPPA

...Í því ljósi finnst mér ráðherranum óvirðing sýnd með því athæfi að troða höfðinu á honum ofan í áfengisflösku. Vona ég að þú gerir ekki svona...
Sigurfljóð Hermanns

2. Janúar 2008

HANGILÆRI TIL RÍKISSAKSÓKNARA

Í umræðunni sem vonandi verður um rauðvínsgjafirnar  á ráðamenn nú um jólin fyndist mér mikilvægt að velta því upp að ef æðstu ráðamenn eiga að komast upp með þetta, hvað sé þá hægt að segja ef yfirmenn lögreglu, skattrannsóknar og annarra eftirlitsstofnanna fara að taka þá sér til fyrirmyndar. Hvers á t.d. ríkissaksóknari að gjalda? Eða fær hann kannski sína flösku? Hvað yrði sagt ef Jói í Bónus gæfi honum hangilæri í soðið? Hann hefur allavega ekki verið ítrekað...
NN

1. Janúar 2008

HUGSJÓNASTARF OG ÞJÓÐARVILJI


...Reyndar held ég að það sé máti Svandísar að tala til fólks þannig að það hrífist af. Hún er með félagslegar hugsjónir sínar á hreinu á sama tíma og hún talar það sem kallað er mannamál. Allt þetta, andúð fólks á spillingu, löngun til að halda eignarhaldi á orkulindunum hjá þjóðinni og væntumþykja um hugsjónafólk, varð til þess að Svandís nýtur stuðnings í þeim mæli sem opin kosning hjá RÚV ohf leiddi í ljós. Hjá Stöð tvö var fíkniefnadeild lögreglunnar fyrir valinu. Það þótti mér einnig gott. Málefnið og mennirnir eiga skilið að fá athygli og  löggæslan vel að  lofinu komin...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Allar greinar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta