30. September 2007
SÓKNARHUGUR Á ÞINGI PSI

Íslensku fulltrúunum á þingi PSI –Public Services Union – heimssamtökum starfsfólks í almannaþjónustu bar saman um hve fróðlegt og áhugavekjandi var að sækja þingið sem stóð alla undangengna viku. Fróðleg erindi voru flutt á þinginu og í tengslum við það störfuðu einnig vinnuhópar þar sem einstök málefni voru brotin til mergjar. Hvarvetna í heiminum sækja markaðsöflin að almannaþjónustunni og hafa þau á sínum snærum stjórnmálamenn sem tala ákaft máli þeirra og greiða götu fjármagnsins í hvívetna. Á þinginu var hvatt til samstöðu bæði til varnar og sóknar.
27. September 2007
HJARTANS ÞAKKIR TIL MOGGANS
Þjóðólfur
26. September 2007
HINGAÐ OG EKKI LENGRA – ÞÖKK SÉ ÖSSURI
Anna Jóna
26. September 2007
VILLI SANNAR SIG
Ingi Þórðarson
26. September 2007
ANNAÐ OPIÐ BRÉF TIL GEIRS OG INGIBJARGAR
...íslensk orkufyrirtæki í almannaeign hafa verið í útrás og plumað sig bærilega án þess að fjárfestar af markaði kæmu þar að. Það vantar eitthvað mikið í röksemdafærslu þeirra sem láta í veðri vaka að þeir verndi almannaeigur með þessum hætti fyrir ævintýramönnum. Ef þetta vekti fyrir ráðamönnum myndu þeir einfaldlega hvetja þá Bjarna Ármannsson, Ólaf Jóhann Ólafsson, Hannes Smárason, bankastjórana og alla hina fjárfestana til að fara í sína útrás án atbeina samfélagsins. Mergurinn málsins er að sjálfsögðu sá að til að dæmið gangi upp fyrir þessa menn verða þeir að fá almannaeignir til ráðstöfunar. Reynslan kennir að þá geta þeir makað... Mín spurning til ykkar er þessi: Ætlið þið að láta óátalið að þjóðin verði svipt orkulindunum? Eða ætlið þið að bregðast við...
24. September 2007
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF SAMTAKA LAUNAFÓLKS

Í dag hófst í Vínarborg 28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, sem um þessar mundir fagna 100 ára afmæli sínu. Þingið mun standa til 28. september nk. Þar eru komnir saman 1500 fulltrúar frá öllum heimshornum; þar á meðal eru fulltrúar BSRB. Undanfarna daga hefur verið lögð lokahönd á mikla undirbúningsvinnu fyrir þingið. Ánægjulegt hefur verið að taka þátt í því starfi og verða vitni að þeim krafti og samheldni sem ríkir á meðal þess fólks sem þarna er mætt fyrir hönd 650 samtaka er hafa á að skipa 20 milljónum félagsmanna í um 150 löndum. Enn og aftur erum við minnt á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og samstöðu sem verkalýðshreyfingin á heimsvísu hefur löngum sótt kraft og næringu til...
20. September 2007
ÞARF AÐ FRELSA SAMFYLKINGUNA FRÁ ÍHALDINU!
Kristján Sig.
20. September 2007
ÍSLAND Í DAG EÐA ICELAND TODAY?

Á Íslandi í dag dásama menn útrásina svokölluðu og hrópa ferfalt húrra fyrir auðmönnum sem gefa milljarð „úr eigin vasa“ í Háskólann í Reykjavík. Voru það ekki annars eitt þúsund milljónir sem Róbert Wessman var að láta af hendi rakna? Menntamálaráðherra segir að þetta sé framtíðin og rektor Háskóla Íslands tekur undir. Sem bakrödd í þessum kór, sem nú syngur óð til auðmagnsins, birtist síðan bankastjóri Landsbanka Íslands á síðu 13 í mánudags-Mogga og segir okkur að það „kunni að reynast óhjákvæmilegt fyrir íslensk fjármálafyrirtæki að taka upp ensku sem vinnumál í höfuðstöðvum sínum á Íslandi“. Þannig gætu þau „ráðið útlendinga til starfa við ýmsa bakvinnslu…“ Hátt atvinnustig á Íslandi valdi bönkunum nefnilega erfiðleikum við að ráða hæfa Íslendinga til starfa.
20. September 2007
KVÓTAKERFIÐ ER RÁNSKERFI
...„Teldu upp þjófana, nefndu þá á nafn,“ sagði einn viðmælandi minn eftir að fyrrnefnd blaðagrein hafði birst. Við þekkjum flest til aðila sem malað hafa gull á kvótabraski í smáum eða stórum stíl. Hins vegar má spyrja hvort allir séu ræningjar sem hagnast á ranglátu kerfi. Þetta er siðferðileg spurning sem rifjar upp gamla staðhæfingu ættaða frá Vilmundi heitnum Gylfasyni: Löglegt en siðlaust. Ekki ætla ég að dæma alla menn óheiðarlega sem hafa hag af ranglátum lögum og reglum. Því fer víðs fjarri. Hins vegar má reisa þá siðferðilegu kröfu á hendur þeim, að þeir taki höndum saman með félögum sínum í íslensku samfélagi að breyta fyrirkomulagi í þá veru að réttlæti sé fullnægt.
Ef menn vilja halda sig við þá kröfu að ég telji upp ræningjana þá væri sennilega næst lagi að segja að...
20. September 2007
ER VERIÐ AÐ KOMA Á TVÖFÖLDU HEILBRIGÐISKERFI?
Öryrki
20. September 2007
AÐ LÁTA OFBELDI VIÐGANGAST ÁTÖLULAUST
Haffi
19. September 2007
LAUNAFÓLK BYRJAÐ AÐ ÞJAPPA SÉR SAMAN

Fréttir berast nú af undirbúningi komandi kjarasamninga. Félög innan ASÍ eiga lausa samninga um áramótin en félög innan BSRB á komandi ári fyrir utan Póstmannafélag Íslands en samningur þeirra rennur út fyrir áramót. Kjarasamningar við ríkið eru almennt lausir 30. apríl n.k. Undantekningar þar á eru samningar Tollvarðafélagsins og Landssambands lögreglumanna sem gilda til októberloka 2008. Almennur gildistími kjarasamninga við sveitarfélögin er hins vegar til 30. nóvember 2008 en samningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar rennur út mánuði fyrr.
19. September 2007
OPIÐ BRÉF TIL GEIRS OG INGIBJARGAR
...Spurning mín til ykkar, oddvita þessarar ríkisstjórnar, sem bæði talið máli hernaðarbandalagsins NATÓ, er þessi: Á ekki þjóð sem ekki vill senda eigin ungmenni á vígvöllinn að vera sjálfri sér samkvæm gagnvart öllum ungmennum? Á hún ekki að standa utan hernaðarbandalags, sem stefnir ungu fólki til árása á aðrar þjóðir? Eða er réttlætanlegt að styðja hernaðarbandalag, sem fer með ungmenni á þann hátt sem við teljum óverjandi gagnvart okkar eigin fólki – okkar drengjum og okkar stúlkum?
19. September 2007
HVAR ERU KRATARNIR?

Birtist í Blaðinu 18.09.07.
Ekki hef ég alltaf verið sammála Krötum í gegnum tíðina. Stundum hef ég þó verið það. Ekki síst þegar um hefur verið að ræða eignarhald á auðlindum. Almennt var lína Krata sú að vilja styrkja eignarhald almennings, þjóðarinnar allrar, á auðlindum Íslands. Þessi afstaða þótti mér stimpluð inn í hina kratísku vitund. Nú stöndum við frammi fyrir því að ráðafólk þjóðarinnar selji frá okkur dýrmætustu auðlindir okkar. Salan á orkuveitunum er nefnilega sala á auðlindum. Hellisheiðarvirkjun er ekki bara hús og pípur. Hún er Hellisaheiðin sjálf. Og nú standa fjárfestar sem vilja komast yfir slíkar auðlindir í röðum til að hrifsa þær til sín. Þetta þarf engum að koma á óvart. Öðru gegnir um vesaldóm ríkisstjórnarinnar því allt er þetta gert með dyggum stuðningi hennar. En getur verið að ...
19. September 2007
ATLOTIN Á FLEKASKILUNUM
Þjóðólfur
19. September 2007
Katrín Jakobsdóttir skrifar: PÓLITÍSKAR ÁKVARÐANIR Í HEILBRIGÐISKERFINU
Að sjálfsögðu má skilja pólitík á margan hátt – og reyndar er það oft eðli hægripólitíkur að láta sem pólitík sé ekki pólitík. Orð á borð við „þetta er ekki pólitískt ferli heldur eðlileg framþróun“ hringja oft viðvörunarbjöllum enda er tal um að ákvarðanir séu ekki pólitískar oft tilraun til að fela pólitík í dulargervi óhjákvæmilegrar þróunar. Því tel ég rétt að rýna aðeins í þá „þróun“ sem formaður Læknafélagsins segir að snúist ekki um pólitík. Hér er t.d. um að ræða þá staðreynd að...
19. September 2007
ÞJÓÐLEGT STJÓRNMÁLAAFL VERKALÝÐSHREYFINGARINNAR!
Helgi
19. September 2007
HVAR ERU JAFNAÐARMENNIRNIR?
Ég er einna mest hissa á hvernig
Þetta er sama spurningin sem var spurð hér áður...
Þjóðúlfur
18. September 2007
KJARAKÖNNUN SFR: AUKIÐ MISRÉTTI
Á undanförnum dögum hefur SFR, Stéttarfélag í almannaþjónustu, stærsta aðildarfélag BSRB birt mjög svo merkilega kjarakönnun, sem viðsemjendur félagsins verða að gefa gaum að í komandi kjarasamningum. Könnunin sýnir þrennt. Í fyrsta lagi sýnir hún að launamunur er að aukast. Munurinn á efstu hópunum og hinum lægstu verður stöðugt meiri. Þetta þarf að leiðrétta og laga. Í öðru lagi staðfestir könnunin eina ferðina enn kynbundinn launamun. Honum þarf að útrýma. Í þriðja lagi sýnir könnunin að kjaramunur fer vaxandi á milli stétta innan hins opinbera annars vegar og á almennum markaði hins vegar. Að þessu þarf að hyggja í komandi kjarasamningum...18. September 2007
ÞARF AÐ GERA UPPREISN?
...Ég trúi því ekki að Íslendingar séu orðnir svo blóðlausir og værukærir að þeir láti þetta yfir sig ganga. Ég spyr um ábyrgð kjörinna fulltrúa á þingi og í bæjarstjórnum og ég spyr um embættismenn sem settir hafa verið til að stýra orkufyrirtækjum okkar – er allur hópurinn kominn á mála hjá peningavaldinu? Eða hvernig stendur á því að Alcoa var hleypt inn í sameiginlegt djúpborunarverkefni Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja? Var það til þess að Alcoa kæmi fætinum inn fyrir dyrnar? Hvers vegna Alcoa? Hvers vegna ekki Alcan, Ríó Tintó eða Bechtel? Hafa menn engar áhyggjur af hagsmunaárekstrum á milli íslenskra orkusala og útlendra orkukaupenda? Eða líður mönnum ef til vill betur ef þeir koma ekki auga á...
18. September 2007
EKKI GOTT HJÁ GEIR
...Á heildina litið var það þó einkum hinn stofnananlegi rammi alþjóðastjórnmála sem var til umfjöllunar á fundinum en ekki hin brennandi álitamál. Eftir erindin gafst færi á að bera fram fyrirspurnir. Ég beindi fyrirspurnum til forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Þegar ég bar fram fyrirspurn mína hafði forsætisráðherra staðið upp og gekk ásamt föruneyti með talsverðum tilþrifum í átt til dyra. Ég vakti athygli hans á að ég óskaði eftir því að heyra mat hans á breyttum áherslum innan NATÓ og hvað það gæti þýtt fyrir Íslendinga. Forsætisráðherra sagði að hann myndi án efa eiga eftir að eiga orðastað við mig um þetta á þingi og strunsaði út. Utanríkisráðherra sat eftir, vék að fyrirspurn minni en svaraði henni ekki. Það var þó skömminni skárra en hjá forsæráðherra. Hjá Geir var þetta ekki gott. Getur verið að engin alvara sé á bak við fyrirheitin um opna umræðu um utanríkismál?
18. September 2007
EIGA KJARASAMNINGAR EKKI FRAMTÍÐ FYRIR SÉR?
Þórður Þórhallsson Laugdal
17. September 2007
HIÐ HUGLÆGA OG MENNINGARLEGA Í TILVERUNNI
Drífa Snædal skrifar athyglisverða og mjög umhugsunarverða grein hér á síðuna þar sem hún fjallar um þá gegndarlausu auðhyggju sem læsir sig nú um þjóðarlíkamann. Drífa fjallar um markaðsvæðingu samfélagsins, sem runnin er undan rifjum stjórnvalda á undanförnum árum og víkur einnig að umræðunni um Evrópusambandið og Evruna: "Einungis efnahagsleg rök eru notuð til að reka áróður fyrir evrunni sem gjaldmiðli fyrir Ísland en það gleymist iðulega í umræðunni að það kostar að halda úti fullvalda þjóð í sjálfstæðu ríki. Á mælikvarða peninganna er engin skynsemi í því að halda úti íslenskunni. Það kostar ógrynni fjár að gefa út orðabækur, túlkaþjónusta er dýr, útgáfa skáldsagna væri miklu hagkvæmari á öðrum tungumálum, fjölmiðlarnir okkar gætu farið í útrás á ensku og svo mætti lengi telja. Það eru nefnilega önnur gild rök fyrir tilveru okkar en efnahagsleg. Þau rök verða líka að heyrast í umræðunni..." Þessu er ég hjartanlega sammála eða skyldi einhver vera búinn að gleyma því að sú var tíð að rætt var um að flytja fátæka íslenska þjóð á Jótlandsheiðar. Það væri...16. September 2007
DÝRMÆTUSTU AUÐLINDIRNAR Á EKKI AÐ SELJA
Guðrún Guðmundsdóttir
15. September 2007
LANDRÁÐ?
Haffi
14. September 2007
Drífa Snædal skrifar: ÓSTJÓRNLEG MARKAÐSHYGGJA RÍKISSTJÓRNARINNAR
14. September 2007
ALLT ER FALT
Grímur
14. September 2007
Á MEÐAN LANDINU ER STOLIÐ…
...Er ekki kominn tími til að þjóðin láti í sér heyra svo um munar áður en landinu öllu er stolið frá henni? Að venju lætur eftirlitsstofnun markaðshyggjunnar ekki sitt eftir liggja. Í skýrslu, sem birt var í gær og er unnin af norrænum "systurstofnunum" Samkeppniseftirlitsins, segir, að nú þurfi að greina betur á milli samkeppnis- og einkaleyfisþátta á raforkumarkaði. Á rúv.is er staðhæft eftir skýrsluhöfundum: "Íslenski raforkumarkaðurinn hefur mikla sérstöðu vegna skorts á samkeppni." En bíðum við, á þetta ekki líka við um Svíþjóð og Noreg og reyndar Evrópu alla? Þar stefnir alls staðar í fækkun fyrirtækja, vikulega koma fram ásakanir um verðsamráð og einkokun með hækkandi raforkuverði. Samt er haldið áfram inn í öngstrætið - með samanlagðri staðfestu þeirra ...13. September 2007
EINN OG SAMI MAÐURINN
Áhugamaður um sparísjóði í þágu almennings
13. September 2007
GUÐLAUGUR, GOSIÐ OG LÝÐHEILSUSTÖÐ

Mikið er það annars ánægjulegt hve áhugasamur Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, er um lýðheilsumál. Í fréttum í kvöld kom fram að sérstaklega væri honum mikið mál að styrkja Lýðheilsustöð. Ný löggjöf á döfinni þar að lútandi, starfshópar stofnaðir og bókstaflega allt á fullu. Þetta minnir mig svolítið á lúðrablásturinn á fréttamannafundunum þegar Lýðheilsutöðin var sett á laggirnar; stofnun sem á meðal annars átti – og á - að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um lýðheilsumál. Til dæmis um skattlagningu á hollustuvörum og óhollustunni einnig. Síðasliðið vor var virðisaukaskattur og vörugjöld færð niður á matvöru. Langmest á gosdrykkjum. Lýðheilsustöð mótmælti. Guðlaugur Þór og félagar lögðu við hlustir. Ekki eftir boðskap Lýðheilsustöðvar. Þeir hlustuðu á...
12. September 2007
SEÐLABANKI Í SJÁLFHELDU
Gunnar Tómasson
11. September 2007
GOTT HJÁ LÚÐVÍK
Ef Orkuveita Reykjavíkur verður seld þá er ekki aðeins verið að selja fyrirtæki sem framleiðir rafmagn heldur einnig fyrirtæki sem ræður yfir vatnsbólum og miðlar heitu vatni og köldu. OR er ábyrgðaraðili dýrmætra náttúruauðlinda. Vatn er dýrmætasta auðlind jarðar og um eignarhald á því munu standa mikil átök á nýrri öld...
10. September 2007
HÆKKA ÞARF LAUNIN HJÁ REYKJAVÍKURBORG
...Þegar þetta er allt tekið saman er niðurstaðan þessi: Reykjavíkurborg viðurkennir að laun starfsmanna eru allt of lág. Hún er tilbúin að ráða á því bót að því tilskildu að greiðslur skattborgarans renni í gegnum bókhald einkafyrirtækis. Ég spyr, er borgarfulltrúi sem svona talar þjónn skattborgarans eða fyrirtækjanna? Hinu fagna ég að fulltrúi borgarstjórnar skuli afdráttarlaust lýsa því yfir að laun starfsmanna séu allt of lág að á því verði að ráða bót. Til þess gefst tækifæri í komandi kjarasamningum. Þá gefst Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og félögum í borgarstjórn Reykjavíkur tækifæri til að sýna vilja sinn í verki.9. September 2007
EFNT TIL UMRÆÐU UM EINKAREKSTUR Í HEILBRIGÐISKERFINU

...Í Viðskiptablaðinu hafa birst nokkrar greinar um þetta efni. Ég nefni tvær. Önnur er eftir Kenneth Rogoff. Hin er eftir Auðbjörgu Ólafsdóttur, annan af tveimur fréttastjórum Viðskiptablaðsins. Ég fagna þessari umræðu og hvet til framhalds. Æskilegt væri þó að málin yrðu skoðuð frá sem flestum sjónarhornum... Í þriðja lagi er mikilvægt að fá svör við eftirfarandi: Samkvæmt hvaða reglum eiga skattfínanseraðar einkastofur eða einkaspítalar að starfa? Mega þeir keppa á markaðsforsendum, með því að bjóða mismunandi verðlag fyrir þjónustu sína (einsog sumir læknar hafa krafist) eða verður ...
9. September 2007
EKKI BAUÐ ÉG ÞEIM Í MAT
Guðrún Guðmundsdóttir
8. September 2007
TVEIR LEIÐARAR OG EINN DV-PISTILL

...Og hver er þá hinn "nútímalegi" fréttamaður? Það er sá maður sem kafar í málin, les sér til og færir okkur fróðleik með umfjöllun sinni. Hinn nútímalegi fréttamaður þorir að vekja máls á atriðum sem ekki endilega falla í kramið hjá valdhöfum hverju sinni. Mér þykja skrif Jóhanns Haukssonar í DV að undanförnu vera í þessum anda. Í grein sem birtist eftir hann sl. fimmtudag, er að finna margt athyglisvert, sem m.a. lýtur að útrás í orkugeiranum en þar vísar JH í fjárfestingar sænska orkurisans Vattenfall á meginlandi Evrópu. Vattenfall gengur ágætlega. En ekki sænskum raforkukaupendum, almenningi, mér og þér. Þarf Mogginn og Fréttablaðið að taka einsog einn leiðara um þetta...
8. September 2007
ÚTLÁNUM BANKA VERÐI TAKMÖRK SETT
1. Seðlabankinn setur sér ákveðin markmið peningastjórnunar varðandi innlenda verðþróun og greiðslujöfnuð við útlönd 2008.
2. Seðlabankinn telur þessi markmið krefjast þess að útlánaaukning viðskiptabankanna verði ekki meiri en 20% frá árslokum 2007 til ársloka 2008.
3. Þar sem stýrivextir hafa sýnt sig vera óvirkt stjórntæki, þá er spurningin hvernig Seðlabankinn geti tryggt að útlánaaukning viðskiptabankanna samrýmist markmiðum peningastjórnunar?
4. Einfalt og skilvirkt stjórntæki væri að takmarka útlánaaukningu einstakra banka við ...
Gunnar Tómasson
7. September 2007
UTANRÍKISMÁLAUMRÆÐAN: BETUR MÁ EF DUGA SKAL

...Fundaröðin hefur verið kynnt sem mikilvægt innlegg í stefnumótandi umræðu um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ef þessi fundur er vísbending um það sem koma skal þá þurfa háskólarnir á Íslandi heldur betur að taka sig á vilji þeir á annað borð bjóða upp vandaða gagnrýna og vekjandi umræðu um utanríkismál, stöðu Íslands og stefnumótun á sviði utanríkismála. Þessi umræðufundur reis ekki undir væntingum og var langt frá því að vera á dýptina. Fyrst og fremst var fjallað um stofnanlega umgjörð utanríkisstefnunnar en ekki tekist á við þau mál sem helst brenna á okkar samtíma og mikilvægt er að efna til umræðu um...Þegar undirritaður óskaði eftir því að forsætisráðherra og utanríkisráðherra tjáðu sig um það efni sagðist forsætisráðherrann þurfa að víkja af fundi en myndi án efa eiga orðastað við mig um þetta efni á Alþingi! Utanríkisráðherrann vék að fyrirspurn minni undir lok fundarins en svaraði henni ekki. Sagði að þessir fundir væru fyrst og fremst til að "örva háskólasamfélagið" en stjórnvöld myndu ekki koma beint að þessum fundum...
6. September 2007
BJÖRN TH. BJÖRNSSON ALLUR
Enginn deilir um að Björn Th. Björnsson, rithöfundur og listfræðingur, var einn af andans jöfrum Íslands á öldinni sem leið. Hann lést í lok ágústmánaðar og hefur nú verið til grafar borinn. Það var við hæfi að prófasturinn á Reynivöllum í Kjós, dr. Gunnar Kristjánsson, skyldi fenginn til að jarðsyngja Björn Th. Brást honum ekki bogalistin fremur en endranær. Minningarorð hans voru áhrifarík, listræn og menningarleg í anda þess manns sem kvaddur var. Þorleifur Hauksson las úr Hraunfólkinu eftir Björn Th. og verður sá lestur án efa mörgum tilefni til að grípa þá bók út úr skápnum til að lesa. Eftirfarandi eru minningarorð Gunnars Kristjánssonar...5. September 2007
ALLTAF AÐ ÆFA TAKTINN
...Brosað var góðlátlega þegar Stjórnarráðsparið tók ganginn sem svo er kallað og gengu á vit fjölmiðlanna í vel æfðum takti í Alþingishúsinu til að tilkynna nýja ríkisstjórn... Í Kastljósi í kvöld sagði Geir forsætisráðherra að þau Ingibjörg væru enn að reyna "að finna taktinn í samstarfinu." Þau hittust vikulega, sagði hann, ..."oftar ef hægt er." Nú langar mig til að reyna að hughreysta ...Mér sýnist Sjálfstæðis/Samfylkingar-takturinn ekkert síður taktfastur en var með Sjálfstæðisflokki og Framsókn á sínum tíma. Þannig að óhætt er fyrir Geir að brosa breitt framan í heiminn og bera sig vel. Það er helst á Geir að heyra að hann hafi áhyggjur af Vinstri grænum, sá flokkur sé heldur meira úti í vinstri kanti en hann hafi gert ráð fyrir! Þetta sagði hann í Kastljósi í kvöld. Hvað skyldi það vera sem er svona mikið út í kantinn að mati formanns Sjálfstæðisflokksins? Skyldu það vera andmæli gegn aðförinni að húsnæðiskaupendum eða milljarðaausturinn í NATÓ (án fjárheimilda), sala á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja til Glitnis eða gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir Grímseyjarferjuskandalinn? Slæmt var að ekki reyndist tóm til að beina talinu aðeins út í kantinn þegar Geir vildi ...5. September 2007
DROTTNINGAR KOMNAR Á KREIK
Jónatan
4. September 2007
Páll H. Hannesson skrifar: NOKKRIR ÞANKAR UM HÁEFFUN OR
4. September 2007
HVERS VEGNA FORSTJÓRAR STYÐJA HÁEFFUN
Sunna Sara
4. September 2007
"NÁTTÚRUFEGURÐIN ER SAMEIGN ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR"

Ummæli Huga Ármannssonar frá Stóra-Núpi í Kastljósi Sjónvarpsins á þá lund að sú náttúrufegurð, sem nú er ógnað af virkjunaráformum Landsvirkjunar í neðri Þjórsá, sé sameign íslensku þjóðarinnar, voru sem töluð út úr mínu hjarta. Um síðustu helgi fór ég ásamt félögum mínum í VG um það svæði sem Landsvirkjun hefur áform um að virkja á við Þjórsá....Getur verið að ofbeldissvaltarinn sé kominn af stað? Að virkja eigi hvað sem tautar og raular, líkt og við Kárahnjúka...Almenningur þarf að fara að hugsa sinn gang gagnvart þessu ofbeldi. Nú er búið að upplýsa að í leynd og af ótrúlegri óskammfeilni og bíræfni voru vatnsréttindi í almannaeign framseld til ráðstöfunar hjá Landsvirkjun nokkrum dögum fyrir kosningar. Hver er siðferðileg staða slíkrar gjörðar? Hvernig á að bregðast við ofbeldi af þessu tagi? Þetta hljóta menn að þurfa að íhuga. Við þessu þarf að finna svör!
4. September 2007
GOTT HJÁ ÖSSURI
Djúpstæðustu átök undanfarna áratugi eru átökin um eignarhald á auðlindum til lands og sjávar. Afdrifaríkar ákvarðanir hafa verið teknar og má í því samhengi nefna kvótalögin sem allir þekkja og ýmis önnur lög af sama meiði sem eru síður kunn þótt þau eigi eftir að hafa áhrif á skiptingu gæðanna ekki síður en kvótalögin sem hafa gert suma að milljarðamæringum en svipt aðra lífsbjörginni. Lögin um Rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, frá 1998 eru þannig einhver skelfilegustu lög síðari tíma en með þeim var eignarhald á jarðhitanum fært í hendur einkaaðila. Átökin hafa snúist um þetta...
3. September 2007
"SVAKALEGA SÁTTIR" - EN HVAÐ NÆST?

...Það er hollt að huga að samhengi hlutanna. Þegar Orkuveita Reykjavíkur er nú sett upp á einkavæðingarfæribandið þá er það gert til að þjóna peningamönnum á borð við þá Finn og Ólaf. Þeir beinlínis lýsa því yfir að vænlegustu fjárfestingarkostir komandi ára séu á sviði raforku og vatns. Er það kannski þarna sem hina "spennandi" fjárfestingar Finns Ingólfssonar er að finna? En peningamennirnir þurfa pólitíska hjálp einsog fyrri daginn. Eðlilegt er að spurt sé: Hverjum eru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmssson, oddviti Sjálfstæðismanna og Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík, að þjóna með því að krefjast þess að OR verði færð í sölubúning með háeffun?
2. September 2007
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Á ÁHORFENDABEKK
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, birtist á sjónvapsskjá þegar RÚV kynnti "háar hugmyndir" um byggingu risavaxinnar einkarekinnar heilbrigðisstofnunar í Garðabæ. Lýsingin á framkvæmdinni var lýsing á einkareknu sjúkrahúsi. Ég fekk ekki annað skilið. Hver skyldi svo eiga að fjármagna fyrirbærið? Við. Skattborgarar þessa lands eiga að borga. En hver ákveður hvað við komum til með að fjármagna? Við eða fulltrúar okkar? Nei, það gera verktakar. Þeir ákveða. Í áhorfendastúkunni situr Guðlaugur heilbrigðisráðherra. Hann var óskaplega ánægður í sjónvarpsfréttum. Sagði að í þessu fælust mikil tækifæri. Hann talaði um viðskiptavini. Það eru þeir sem við hingað til höfum kallað kransæða- og krabbameinssjúklinga. Nú þurfa þeir að ...2. September 2007
MISLUKKUÐ SAMFYLKING
Ég er að verða meyr með aldrinum. Svo er komið að ég farinn að kenna í brjósti um Samfylkinguna. Henni virðist ekki ætla að lukkast að lenda neinu máli áfallalaust. Síðast var það Árni Páll Árnason Samfylkingarþingmaður sem kallaði fram þessa tilfinningu. Það gerðist við lestur greinar hans í Morgunblaðinu 23. ágúst sl. Þar er vísað til þess að hann sé varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis eins og til að árétta þann skilning að greinin fjalli um utanríkismál. Á þessu var ekki vanþörf því viðfangsefnið var fyrst og fremst Vinstrihreyfingin grænt framboð undir fyrirsögninni: "Að styðja Hamas en fordæma Norðmenn." Árni Páll gerir því skóna að fulltrúar VG séu harla...
2. September 2007
HÁVAXTASTEFNA SEÐLABANKANS: LEIKHÚS FÁRÁNLEIKANS
Gunnar Tómasson
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIÐLAR SKOÐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












