Beint á leiðarkerfi vefsins

31. Desember 2007

GÓLAÐ ÚT AF FÁEINUM FLÖSKUM

...En hvað um víngjafir almennt, hafa þær tilætluð áhrif á þiggjandann eins og þið kommarnir viljið vera láta? Rannsóknir sýna ótvírætt að svo er ekki. Í 95% tilvika gleymist gefandinn eða þá að þiggjandinn kennir gefandanum um ýmis asnaprik sem hann...
Þjóðólfur

31. Desember 2007

TROJUHESTAR FJÁRMÁLAHEIMSINS

...En Guðfríður Lilja Grétarsdóttir benti réttilega á það í Silfri Egils í gær að í sínum huga snerist þetta alls ekki um eina flösku af víni heldur væri þetta fyrst og fremst táknrænt um það hvernig stjórnmála- og fjármálaheimurinn væru  að renna saman í einn graut. Þetta er mergurinn málsins, ekki ein rauðvínsflaska til eða frá. Össur Skarphéðinsson sagðist í sama þætti hafa fengið gjafir frá samtökum fatlaðra. Ágætt, enginn að amast við því  enda ...
Haffi

31. Desember 2007

RÁÐHERRAR UNDIR ÁHRIFUM?


Eins og fram hefur komið færði bankinn ráðherrunum  í ríkisstjórninni vínflösku að gjöf. Skál kæru vinir. Takk fyrir hið liðna. Væntum  áfram góðs samstarfs. Ráðherrarnir hafa verið spurðir  álits á þessari gjöf Landsbankans til ríkisstjórnar Íslands.  Viðskiptaráðherra sagði gjöfina „óheppilega". Jóhanna  var ekki búin að „opna" en sagði að þetta hefði engin áhrif. Hefði kassi kannski verið áhrifameiri...

30. Desember 2007

FLJÚGANDI NÝÁRSKVEÐJUR

Ég sendi þotuliði landsins mínar bestu nýárskveðjur með óskum um hundruða milljarða gróða...
Loptur

30. Desember 2007

SAMFYLKINGIN: KLAPP Á KOLLINN FRÁ GEIR

Mér berst blaðið 24Stundir inn um bréfalúguna daglega. Í gær var þar grein eftir Helga Hjörvar, alþingismann, að mæra Sjálfstæðisflokkinn og mátti hann vart vatni halda yfir því að fá að vera með Íhaldinu í ríkisstjórn. Öðru vísi mér áður brá því sami Helgi gekk hart fram í gagnrýni á fyrri ríkisstjórn, þ.e. þegar Framsókn sat með Íhaldinu á sama stað og Samfylkingin situr nú. Þetta er svoldið skrítið þegar haft er í huga að engin breyting hefur orðið á stjórnarstefnunni nema þá helst að nú er harðar gengið eftir...
Sunna Sara

30. Desember 2007

KOMUGJÖLDUM BREYTT


...Með öðrum orðum, fréttin fjallar í reynd um breytta kostnaðarskiptingu innan rukkunarkerfis heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa. Börn og unglingar koma til með að fá ókeypis, það er gott. En það eru hins vegar aðrir sjúklingar sem verða látnir borga brúsann! Ekki er um að ræða breytingu innan skattakerfisins, nei breytingarnar eru takmarkaðar við sjúklingahópinn, tilfærslan er innan hans! Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra, þykir það vera ósköp hóflegt  að borga 3700 krónur sem aðgangseyri að slysa- og bráðamóttöku og ekkert að því að hækka þau gjöld. Einu sinni var þetta ókeypis. Er það ekki þannig sem við viljum hafa það?

28. Desember 2007

GÆFULJÓS YFIR HAFNARFIRÐI

flugeldar1
Hafnfirðingar hafa nú sagt að þeir vilji öðlast hlut í Orkuveitu Reykjavíkur og ganga þar með til samstarfs við OR í orkumálum. Með þessu eru Hafnfirðingar að leggja áherslu á að þeir vilji að orkumál verði algerlega á hendi opinberra aðila og er það pólitísk afstaða sem VG og Samfylking sameinast um. Þetta er að mínum dómi mikilvæg ákvörðun og vonandi vegvísir inn í framtíðina.
Vonandi mun Samfylkingin í Hafnarfirði íhuga stuðning við tillögur sem Guðrún Ágústa hefur borið fram fyrir hönd VG í Hafnarfirði um umfangsmiklar úrbætur á sviði velferðar-, skipulags- og umhverfismála. Samfylkingin í Hafnarfirði hefur nú samþykkt...

27. Desember 2007

HVERS VEGNA EKKI ERLENDUR FRÉTTASKÝRINGAÞÁTTUR Í RÚV-SJÓNVARPI?


Morðið á Benazir Bhúttó í Pakistan hefur, einsog við mátti búast, vakið heimsathygli. Hinn gamalreyndi fréttamaður og fréttaskýrandi, Bogi Ágústsson, var mættur á skjáinn í fréttatíma RÚV í kvöld með umfjöllun um atburðinn og líklegar afleiðingar. Prýðilegt. En það á eftir að botna fréttina. Slíkt verður aðeins gert í fréttaskýringaþætti. Hvers vegna eru engir erlendir fréttaskýringaþættir í RÚV ohf? Sú var tíðin að slíkir þættir voru vikulega. Bogi Ágústsson var einn þeirra sem stýrðu slíkum þáttum. Hvers vegna í ósköpunum er honum ekki fengið slíkt verkefni nú? Er metnaður RÚV ohf minni en var hjá Ríkisútvarpinu fyrir tuttugu árum?  Finnst stjórnendum RÚV ohf þeir ...

27. Desember 2007

BANKAR OG FASTEIGNABRASK

Rakst á umræðu frá 4. apríl 2005 hjá þér þar sem lesandi sendi inn hugleiðingu varðandi " fasteignabrask bankanna ".  Sá þó engin svör eða frekari umræðu. Var eitthvað meira fjallað um þetta og ef svo, er hægt að ...
Freyr

26. Desember 2007

LITLU JÓLIN Í SAMFYLKINGUNNI

Nú fer það fjöllum hærra að ungir Samfylkingarmenn ætli að skera upp herör gegn ráðningu héraðsdómara á Akureyri. Finnst það vera mál málanna að lýsa á hinar pólitísku tengingar við ráðninguna. Gott og vel, ágætt að einhverjir  nenni að hugsa um þetta sem mér finnst þó varla geta talist mál málanna. Það sem mér finnst vera mál málanna er að ungt Samfylkingarfólk skuli taka því þegjandi að Þjórsánni sé fórnað á altari stóriðju, heilbrigðiskerfið einkavætt, lagst í duftið fyrir hernaðarhyggju Bush og NATÓ - allt án þess að heyrist  múkk frá hinni ungu Samfylkingu. Dauðaþögn. Ungu Samfylkingarfólki virðist vera ...
Grímur

25. Desember 2007

TEKIÐ OFAN FYRIR VALDIMAR LEIFSSYNI


...Þegar talað er um íslenska dagskrárgerð þá er það nákvæmlega eðalefni á borð við þessa mynd Valdimars Leifssonar  sem RÚV ohf á að vera að framleiða. Ekki bara öðru hverju heldur í hverri viku, alla mánuði ársins! Þetta ber RÚV-inu skylda til að gera svo lengi sem okkur er gert að greiða afnotagjöldin. En ohf-ið sýndi þáttinn. Endurteknar þakkir...En eitt að lokum. Þetta er ekki síðasta myndin sem gerð er um Jónas Hallgrímsson. Þetta var ekki myndin sem setti hann inn í hið yfirvegaða sögulega samhengi. Þetta var ekki myndin sem valdi kvæðin og verkin sem best sýna snilld hans. Öllu ægði saman. Veikleikum Jónasar jafnt sem snilligáfu. Myndin hjálpaði okkur hins vegar að uppgötva nýjar víddir. Flestar geðfelldar. Ekki allar... 

24. Desember 2007

BETLEHEM Í DAG: UM ÞAÐ AÐ VERA STÓR EÐA SMÁR


...Ofsóknir Ísraela á hendur Palestínumönnum - sem nú beinast hvað harkalegast að Gaza svæðinu - eru einmitt sérstaklega óhugnanlegar fyrir hve úthugsaðar þær eru og hve framkvæmdin er  skipuleg....Eina ósk á ég íslensku ríkisstjórninni til handa þegar hún leggst á bæn síðdegis og minnist fæðingar Jesús Krists; nefnilega að hún hugleiði að vestrænir ráðamenn - við erum jú í þeim klúbbi - standa nú gagnvart undirokuðu fólki í Palestínu í sporum Pontíusar Pílatusar sem fyrir tæpum tvö þúsund árum hafði líf Krists í hendi sér. Hvernig fara þeir með vald sitt? Ætla valdamenn samtímans að sýna siðferðilega stærð eða verður smæðin þeirra hlutskipti...

23. Desember 2007

FJÁRMÁLARÁÐHERRA OG MORGUNBLAÐIÐ GERA LÍTIÐ ÚR MISSKIPTINGU


Á Íslandi hefur efnaleg misskipting aukist hröðum skrefum á undanförnum árum. Rök má færa að því að félagslegra áhrifa sé þegar farið að gæta og að við stefnum í átt að samfélagi mismununar á mörgum sviðum þjóðlífsins. Ýmsir hafa varað við þessari þróun og hefur Stefán Ólafsson, prófessor, staðið þar framarlega í flokki. Í hópi stjórnenda Morgunblaðsins er einnig að finna menn - að minnsta kosti mann - sem tekið hafa undir þessi varnaðarorð. Þess vegna voru Staksteinar Morgunblaðsins sl. fimmtudag  að mörgu leyti stílbrot. Þar er tekið undir furðulegar og óábyrgar vangaveltur Árna M. Mathíesen, fjármálaráherra, þar sem hann gerir því skóna að nú hljóti að ...

23. Desember 2007

GLEÐILEGA HÁTÍÐ

Ættingjum okkar og vinum, sem og landsmönnum öllum, sendum við...
Sigurfljóð Hermannsdóttir og fjölskylda

23. Desember 2007

AÐGÁT SKAL HÖFÐ

Ungur var ég að árum þegar ég las ljóð Einars Benediktssonar, Einræður Starkaðar, og enn hefur sá mannúðar boðskapur sem þar er að finna ekki liðið mér úr minni. Oft finnst mér að "hneykslunarhellur" nútímans, sem ekkert "misjafnt mega sjá", mættu að ósekju lesa þetta ljóð Einars. Þar á meðal eru "samviskuhellurnar" sem súpa nú hveljur yfir því að nýskipaður héraðsdómari...
Þjóðólfur

22. Desember 2007

MENNTAMÁLARÁÐHERRA: SJÁLFSTÆÐISMENN KUNNA AÐ EINKAVÆÐA!


...
En á meðal annarra orða, hvað er það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert svona afskaplega vel? Er Þorgerður Katrín að tala um sölu SR-mjöls; hneykslið sem hlaut áfellisdóm Ríkisendurskoðunar? Eða er hún að tala um einkavinavæðingu ríkisbankanna eða sölu Pósts og síma? Er kannski verið að tala um nýjasta afrekið, Þróunarfélagið á Keflavíkurflugvelli, þar sem margt bendir til að stórfelld spilling sé til staðar, jafnvel hrein og klár lögbrot? Þar stýrir Sjálfstæðisflokkurinn vissulega  för.  Hann kann þetta segir varaformaður  Sjálfstæðisflokksins! Og Samfylkingin fær klapp á kollinn, námsfús  nemandi í Stjórnarráðinu í læri hjá hinum kunnáttusama kennara. Skyldu kjósendur Samfylkingarinnar vera ...

21. Desember 2007

HVAÐ MEÐ EFTIRLAUNA-FRUMVARPIÐ?

Sér þingflokkur VG ekki sæng sína upp reidda?  http://dv.is/frettir/lesa/2138 ...
Hjörtur

21. Desember 2007

HEILBRIGÐISRÁÐ-HERRA VERÐUR AÐ SVARA RÖKUM MEÐ RÖKUM

Ég þakka fyrir að þú skulir vekja athygli á grein Rúnars Vihjálmssonar, prófessors í heilsuhagfræði, um íslenska heilbrigðiskerfið og framtíð þess. Ég las þessa grein og er ég þér sammála um að þeir sem nú stýra ferðinni í heilbrigðisráðuneytinu verða að svara röksemdum manna á borð við Rúnar, áður en þeir setja allt upp í loft. Ráðherra verður að svara rökum með rökum. Ágæt grein Gunnars Alexanders Ólafssonar, sem þú einnig vitnar í, hafði farið framhjá mér en Dahlgren að sjálfsögðu ...
Haffi

21. Desember 2007

BLÓM Í HÉRÐASDÓMI

Í víti og ræsi vaxa blóm
sem vekja skömm og hrylling,
þau herja nú á Héraðsdóm,
þau heita Vald og Spilling.
...
Kristján Hreinsson, skáld

21. Desember 2007

HVAÐAN KEMUR DRIFKRAFTURINN?

Sigurður Gísli Pálmason...Þetta tel ég vera hárrétt mat hjá Sigurði Gísla Pálmasyni. Drifkrafturinn í íslensku samfélagi verður ekki skýrður með skírskotun til efnalegra gæða. Það er hið huglæga í tilverunni sem ræður úrslitum. Ég bjó um skeið í Edinborg í Skotlandi. Falleg borg, gott fólk og kröftugt. Í Edinborg bjó helmingi fleira fólk en á Íslandi öllu. Þó var Edinborg minni en Reykjavík. Íslendingum fer jafnt og þétt fjölgandi. Hvort skyldi eiga fyrir okkur að liggja, að stækka eða smækka? Þessar spurningar vöknuðu í huga mér þegar ég las viðtalið við Sigurð Gísla Pálmason, mann sem hefur peninga handa á milli en hefur ekki misst sjónar á mikilvægi hinnar  huglægu og menningarlegu víddar tilverunnar...

20. Desember 2007

TALAÐ AF ÞEKKINGU UM HEILBRIGÐISMÁL


...Ábendingar Rúnars Vilhjálmssonar í grein hans í Morgunblaðinu eiga heilmikið sammerkt með því sem fram kom hjá hinum virta fræðimanni Göran Dahlgren, margverðlaunuðum ráðgjafa um heilbrigðismál, í fyrirlestri sem hann á sínum tíma flutti hér á landi um heilbrigðismál á vegum BSRB. ..Annan greinarhöfund um heilbrigðismál langar mig til að nefna en það er Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðing á sviði heilbrigðisstjórnunar. Hann hrakti þá bábilju í grein sem hann birti í Morgunblaðinu 16. febrúar sl. að íslenska heilbrigðiskerfið væri óhagkvæmt:

20. Desember 2007

Einar Ólafsson skrifar: STÓRI SANNLEIKUR VARNAR-MÁLANNA

...Miðað við allt sem gerst hefur á þessu rúma ári síðan bandaríski herinn fór er það skrítið að ekki skuli enn hafa náðst að skipa umrædda öryggisnefnd stjórnmálaflokkanna og bendir kannski til að það „sammæli" sem ráðherrann talar um eigi einfaldlega að byggjast á sameiginlegu gagnrýnisleysi núverandi stjórnarflokka gagnvart NATO og þeirri skoðun þeirra að það sé óumbreytanlegt að...

18. Desember 2007

HEILRÆÐI FYRIR STELPUR

Ungar konur elska best
þær óttast vart sinn herra.
En sá sem konur svíkur mest
má sjálfur tár sín...
Kristján Hreinsson, skáld

17. Desember 2007

AUÐMENN ÍSLANDS OG ÁHERSLUR VERKALÝÐSHREYFINGAR


Í Morgunblaðinu hafa að undanförnu birst greinar eftir forsvarsfólk úr röðum BSRB sem hafa varað við vaxandi misskiptingu í íslensku samfélagi. Stundum hefur verið talað um að tvær eða fleiri þjóðir í landinu. Um helgina birtust tvær skýrar birtingarmyndir þessa. Annars vegar mátti finna hve gjörsamlega jarðsambandslaust þotuliðið úr auðkýfingastétt Íslands er orðið. Hins vegar birtist athyglisverð úttekt í Hjálmi, málgagni verkalýðsfélagsins Hlífar um launaþróun fiskverkafólks og alþingismanna sem er vísbending um vaxandi kjaragliðnun í þjóðfélaginu. Nánar að þessu tvennu...

17. Desember 2007

Drífa Snædal skrifar: VANDI HINNA TRÚLAUSU

Þjóðkirkjan er gríðarlega öflug á Íslandi og einmitt þess vegna er svo mikilvægt að gæta þess hvernig hún fer með vald sitt. Ríkistrúin er svo sjálfsagt mál fyrir flesta Íslendinga að efasemdaraddir hafa hingað til verið fáar og frekar daufar. Sem betur fer hefur umræðan opnast og á Auður Lilja Erlingsdóttir varaþingkona Vinstri grænna töluverðan heiður af því, en hún vakti einmitt máls á inntaki hins kristilega siðgæðis í fyrirspurn til menntamálaráðherra á nýloknu þingi.

17. Desember 2007

MISSKIPTING ÓGNAR SAMHELDNI

Ég vildi bara þakka þér fyrir frábæra síðu Ögmundur, ég er ein þeirra fjölmörgu sem hlakka til að lesa pistlana þína á hverjum degi, enda er síðan eitt öflugasta málgagn réttsýni í okkar samfélagi... Ég vil sérstaklega fá að taka undir grein ykkar Þuríðar Einarsdóttur um nauðsyn þess að hækka laun fólks í almannaþjónustunni. Það ætti að vera ólíðandi fyrir okkur öll að horfa upp á hvernig þeir hópar sem síst skyldi - þær stéttir sem raunverulega halda samfélaginu gangandi - hafa dregist aftur úr...
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

17. Desember 2007

RÁFAÐ UM SKÓGINN

Stundum er haft á orði að fólk sjái ekki skóginn fyrir trjánum  þegar það einblínir á einstaka þætti máls en áttar sig ekki á heildarsamhengi hlutanna.  Ekki veit ég  hvort það er vísvitandi gert hjá „Þingskapameirihlutanum" á þingi, sem þið kallið svo, að hamast á því að deilurnar um ný þingskapalög hafi eingöngu snúist um lengd ræðutíma. Ég hef sannfærst um að svo var  alls ekki...
Sunna Sara

17. Desember 2007

DRÖGUM RÉTTA LÆRDÓMA

Pistill þinn með fyrirsögninni "VINIR ÍSLANDS?" er góður og málefnalega hárréttur að öllu leyti!    Það er einnig hughreystandi að Morgunblaðsmenn og aðrir fjölmiðlar sáu hið hræðilega ofbeldi gegn saklausri íslenskri konu í heimsókn til Bandaríkjanna og höfðu manndóm í sér til að bregðast við í anda sjálfstæðrar þjóðar sem lætur ekki svívirða saklausan landa sinn átölulaust! 
Úlfur

17. Desember 2007

HVERJIR FÓÐRUÐU KANANN?

Merkileg þótti mér ábending þín í Silfri Egils í gær um fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur á þingi um aðgang bandarískra lögregluyfirvalda að upplýsingum um Íslendinga frá fyrri tíð.  Ég fletti þessu upp á Alþingisvefnum og verð ég að segja að mér þykir harla undarlegt að þetta skyldi ekki fá meiri umfjöllun en raun bar vitni...
Grímur

16. Desember 2007

VINIR ÍSLANDS?


...Og til Morgunblaðsins:  Sú var tíðin að blaðið taldi réttilega Kreml-verja engar málsbætur eiga sér eftir að uppljóst varð um öll þeirra voðaverk, þar á meðal ...fangaflutninga til Síberíu. En hvað með pyntingarflugin til Guantanamo? Ég læt liggja á milli hluta að þessu sinni, Íraksinnrásina, Afganistan, Palestínu, Mið-Ameríku, ofbeldið gegn fátækum þjóðum um víða veröld. Ég staðnæmist að þessu sinni aðeins við frumstæða grimmd sem Bandaríkjastjórn hefur sýnt gagnvart einstaklingum í Guantanamó og Abu Graib. Myndin hér að ofan birtist á sínum tíma í breska tímaritinu Economist og sýnir flutninga á föngum á  leið í fangabúðir Bandaríkjahers þar sem þeir voru pyntaðir...Í mínum huga átti að segja upp öllu hernaðar- og varnarsamtarfi við Bandaríkjastjórn um leið og vitað var um þau grófu og grimmilegu mannréttindabrot sem skipulögð hafa verið að hennar undirlagi...

16. Desember 2007

PERSÓNUR OG PÓLITÍK


...Ég  hef sannfæringu fyrir því að kröfur um frekari samdrátt séu sjúkrahúsinu beinlínis hættulegar, auk þess sem ég hef fært fyrir því rök að áframhaldandi niðurskurður sé til þess fallinn að knýja heilbrigðiskerfið út í einkarekstur. Við lok umræðunnar á Alþingi - undir þinglokin - óskaði ég eftir því að forsætisráðherra svaraði fyrir stefnu stjórnarinnar í þessum efnum.  Lítið var á svörum hans að græða. Hann sakaði mig  um útúrsnúninga og kvað ummæli mín um störf framkvæmdastjóra SA á Landsspítalanum  vera einkar ósmekkleg án þess þó að færa fyrir því málefnaleg rök.  Röksemdum mínum svaraði hann ekki . Lét nægja að beina að mér ásökunum.
Hvað Vilhjálm Egilsson áhrærir, kvaðst ég þekkja hann sem...

14. Desember 2007

SÖGULEG ÞINGLOK


Þinglokin voru söguleg að því leyti að í fyrsta sinn frá því ég kom á Alþingi um miðjan tíunda áratuginn neitar stjórnarmeirihlutinn að taka nokkuð tillit til stjórnarandstöðu. Þannig hafði VG beint þeim tilmælum til oddvita ríkisstjórnarflokkanna - og þá fyrst og fremst til forsætisráðherrans - að til endurskoðunar yrði sú ákvörðun að heimila heilbrigðisráðherra  að ráða til starfa  forstjóra nýrrar söluskrifstofu heilbrigðismála á grundvelli bráðabirgðaákvæðis í lögum um almannatryggingar...

14. Desember 2007

GUÐLAUGUR OG SLÁTURFÉLAGIÐ

Oft hefur þú verið óvæginn við pólitíska andstæðinga en nú er mér nóg boðið. Að tengja heilbrigðisráðherra landsins, Guðlaug Þór Þórðarson, við Sláturfélag Suðurlands finnst mér svo ósmekklegt að engu tali tekur...
Sigurfljóð Hermannsdóttir

13. Desember 2007

BSRB: MISSKIPTINGIN ÓGNAR SAMHELDNI OG STÖÐUGLEIKA


...Í grein okkar Þuríðar staðhæfum við að misskiptingin í íslensku þjóðfélagi sé orðin slík að samheldni þjóðarinnar og stöðugleika í samfélaginu sé ógnað.
Gegn þessu þurfi að ráðast í komandi kjarasamningum: „Sá söngur mun eflaust hefjast að ekki megi spenna bogann of hátt, stöðugleikanum megi ekki ógna. Nú er það hins vegar svo að undir verðbólgubálinu hafa engir láglauna- og millitekjuhópar kynt. Þar hafa aðrir kyndarar verið að verki. Krafan frá hendi BSRB hefur reyndar um langt skeið verið sú að reynt verði að koma böndum á verðbólgu og þenslu. En samtökin segja jafnframt að...

12. Desember 2007

ÞINGSKAPAMEIRIHLUTINN Á ALÞINGI


Fáheyrt er að reynt sé að gera viðamiklar breytingar á þingskapalögum gegn mótmælum stærsta stjórnarandstöðuflokksins. VG hefur margítrekað lýst vilja til breytinga á þingskapalögum og lagt fram hugmyndir þess efnis, en jafnframt óskað eftir því að þingið gefi sér rúman tíma til að ná niðurstöðu... Á þetta hefur hinn nýi þingskapameirihluti ríkisstjórnarflokkanna, Framsóknarflokks og Frjálslyndra ekki fallist og tekið höndum saman um að þvinga málið í gegn með hraði. Öllum frekari viðræðum um útfærslur á frumvarpinu var afdráttarlaust hafnað á fundi allsherjarnefndar í kvöld...

12. Desember 2007

UM KIRKJU, RÍKI, SKÓLA OG VG

Nú á sér mikil umræða um aðskilnað skóla og kirkju. En aðskilnaður skóla og kirkju var einmitt málamiðlunin á landsfundi VG í hitteðfyrra þegar þjóðkirkjumálið var til umfjöllunar. Ég hef ekki heyrt eitt einasta orð frá þér (sem varst þó lykilmaður í þessari málamiðlun) né öðrum kjörnum fulltrúum okkar á alþingi um þetta mál síðan. Þetta er nokkuð sérstakt einkum nú þegar virkilega er verið að takast á um þessi mál í samfélaginu. Hvað veldur þessari djúpu þögn…
Kveðja,
Tumi Kolbeinsson

11. Desember 2007

HVATNING FRÁ BSRB: VERJUM VELFERÐINA


…Í þessari grein birtast skýr skilaboð frá forystu BSRB til Alþingis sem nú ræðir um Fjárlög ríkisins fyrir komandi ár. Greinarhöfundar hvetja fjárveitingarvaldið til að verja velferðarkefið áföllum sem séu fyrirsjánaleg ef opinberum stofnunum verði áfram sniðinn þröngur stakkur. Þau vísa til manneklu sem orðin sé slík á ýmsum stofnunum að beinlínis stefni í neyðarástand ef fjárhagur þeirra verði ekki stórbættur svo og kjör starfsfólksins. Eftirfarandi úr grein þeirra Garðars og Kristínar hlýtur að verða okkur öllum til umhugsunar...

11. Desember 2007

GRÓFUR BRANDARI EÐA HÓTUN?

Lastu þennan pistil eftir Gilzenegger, hann var grófur brandari, en að skilja hann sem hótun um hópnauðgun, er eitthvert mesta rugl sem ég hef séð. Og hvað þá að samsama þann pistil á alla sem finnst femínistarnir komnir út í öfgar...
Ólafur

10. Desember 2007

ERU JAFNAÐARMENN GENGNIR ÚR SAMFYLKINGUNNI?

...Fimm milljarðar eru ekki miklir peningar þegar um er að ræða alla öryrkja og alla aldraða á Íslandi. Síðan ætla þau að svelta velferðarkerfið. Og til hermála setur Samfylkingin á annan milljarð! Hvar er jafnaðarfólkið...
Haffi

10. Desember 2007

SÖLUMIÐSTÖÐ SJÚKLINGA


Hér hafa menn staðnæmst sérstaklega við smyglgóss í frumvarpi heilbrigðisráðherra um almannatryggingar, en þetta frumvarp er einmitt hluti af hinum umfangsmiklu kerfisbreytingum. Hvers vegna smyglgóss? Jú vegna þess að í lítilli lagagrein – nánar tiltekið númer 18 í þessu frumvarpi – er heilbrigðisráðherra gefin heimild til að setja á laggirnar sérstaka verslunarmiðstöð fyrir heilbrigðisþjónustu...

9. Desember 2007

JÓHANNA OG FJÖLSKYLDUHJÁLPIN

...Í annað skipti á hennar stjórnmálaferli er það hlutskipti hennar og annarra Krata að leiða Sjálfstæðisflokkinn til valda á Íslandi. Eins og jafnan er allt lagt í að gera sem mest úr einhverjum molum til öryrkja og aldraðra – en á sama tíma búa þau í haginn fyrir fjármagnsöflin. Eins gott að kíkja við hjá Fjölskylduhjálpinni...
 Grímur

9. Desember 2007

KANKAST Á MEÐAN HEILBRIÐGÐISKERFINU BLÆÐIR ÚT


...Svo var að skilja að helsti vandi íslenskra stjórnmála væri hve Vinstrihreyfingunni grænu framboði væru mislagðar hendur. Öðru máli gegndi um ríkisstjórnina. Þar væri alveg sérstaklega gott andrúmsloft enda hefði tekist náið samband með formönnum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Agnesi þótti það krúttlegt að sjá þau hvíslast á Geir og Ingibjörgu Sólrúnu á Morgunblaðsmynd í vikunni sem leið... Agnes Bragadóttir og Egill Helgason vilja að Jón Bjarnason þegi... En skyldu þau sem eiga allt sitt undir góðu heilbrigðiskerfi vilja þögn? Skyldi heilbrigðisstarfsfólk vilja láta þagga niður í Jóni Bjarnasyni og öðrum sem setja fram rökstudda gagnrýni og krefjast úrbóta...

8. Desember 2007

HVERNIG AUKA MÁ VIRÐINGU ALÞINGIS

…Til að auka virðingu og virkni Alþingis legg ég til að það verði sett regla um að ekki sé fundarfært ef minna en 2/3 alþingismanna sitji fundinn. Mér finnst það óvirðing við þjóðina ef alþingismenn sitja ekki fund. Þætti gaman að fá viðbrögð.
Nils

8. Desember 2007

MIKILVÆG SKILABOÐ FRÁ BSRB


…Í komandi viku er stefnt að því að afgreiða fjárlög ríkisins fyrir næsta  ár. Í fjárlögum er kveðið á um fjárframlög til velferðarstofnana samfélagsins en þeim er nú mjög þröngur stakkur sniðinn eins og fram hefur komið í fréttum. Ríkisstjórninni væri nú í tengslum við afgreiðslu fjárlaga, hollt að hugleiða varnaðarorð Árna Stefáns Jónssonar og Elínar Bjargar Jónsdóttur, sem auk þess að vera varaformenn BSRB, eru í forystu fyrir fjölmenn stéttarfélög. Þau vita sem er að fjársveltar stofnanir munu eiga í erfiðleikum með að bjóða upp á eftirsóknarverð kjör og þar af leiðandi í vanda með að fá fólk til starfa...

7. Desember 2007

RÆÐUM SAMAN MÁLEFNALEGA

Birtist í DV 06.12.07.
…Ég hef skoðað þessi skrif og neita því ekki að mér varð mjög hverft við. Hótað er hrottafengnum nauðgunum og öðrum líkamsmeiðingum og höfð í frammi meiðandi og særandi ummæli um fólk. Þessar hótanir eru settar fram í nafni einstaklinga en einnig er um að ræða nafnlaus skrif. Í netheimum geta menn farið huldu höfði en þegar skrif birtast á nafnkenndum heimasíðum hljóta eigendurnir að vera jafnframt ábyrgðarmenn. Enginn á að komast upp með að þagga niður lýðræðislega umræðu með ofbeldishótunum...

7. Desember 2007

ÓÞOLANDI AÐ VERA HÓTAÐ

Birtist í 24 Stundum 06.12.07
…Það eitt að kvenfrelsisbaráttan kalli á slík viðbrögð segir sína sögu um fordóma sem eru til staðar í þjóðfélaginu gegn því sem margir töldu óumdeild mannréttindi. Við þá, sem hafa í hótunum við þau okkar sem hafa hvað ötulast haldið gunnfánum baráttunnar á loft, vil ég segja þetta: Vinstrihreyfingin grænt framboð lítur á ögranir og hótanir í garð einstaklinga, sem bera stefnumál okkar fram á lýðræðislegum vettvangi, sem ögrun í garð okkar allra…

7. Desember 2007

TIL VARNAR LÝÐRÆÐINU

Birtist í Morgunblaðinu 06.12.07.
Til eru einræðisríki án einræðisherra. Það eru ríki þar sem rétttrúnaðurinn ríkir. Þegar honum er ógnað er brugðist við með offorsi og hótunum, stundum ofbeldi. Á Íslandi ógna þau sem tala fyrir kvenfrelsi nú ríkjandi einræðishugsun. Þá fullyrðingu dæmi ég af viðbrögðum við nánast öllu því sem slíkt baráttufólk hefur fram að færa. Þetta höfum við fengið að reyna að undanförnu. Beitt er háðsglósum og fyrirlitningartali, gamalkunnum vopnum þeirra sem ekki treysta sér til rökræðu. Það sem færri vita er að jafnvel er gengið enn lengra…

7. Desember 2007

SJÁLFUM MÉR TIL VARNAR

Birtist í Fréttablaðinu 06.12.07.
…Hver eru þau kvenfrelsismál sem fara helst fyrir brjóstið á þessu umburðarlitla og ofbeldisfulla fólki? Ég læt mér nægja að vísa í baráttumál þess stjórnmálaflokks sem ég starfa innan, Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Í þeim flokki höfum við barist fyrir því að komið verði í veg fyrir kynbundið ofbeldi, að mansal verði stöðvað, kynbundnum launamun útrýmt, að jafnræði ríki með kynjunum á vinnumarkaði, innan stjórnsýslunnar og í fyrirtækjum. Við viljum með öðrum orðum tryggja mannréttindi öllum til handa á öllum sviðum þjóðlífsins, óháð kyni…

7. Desember 2007

Einar Ólafsson skrifar: RÚSSAR TROÐA ILLSAKIR VIÐ GRANNA SÍNA

...Það hefur löngum verið siður að nota einhverskonar myndhvörf um Rússland: „rússneski björninn“, og þau bjóða upp á að spinna áfram: „hann sýnir hrammana“ og “sefur ekki vært í hýði sínu“. Rússar eru óargadýr, þeir er ekki siðmenntaðir. Þess vegna er líka allt í lagi að segja að þeir „troði illsakir við granna sína“. Ætli ríkissjónvarpið íslenska hafi gert mikið úr því að sjálftraust Bandaríkjamanna hafi aukist eftir lok kalda stríðins og þeir farið að troða illsakir við önnur lönd... Hverjir eru að troða illsakir við aðra? Hverjir sýna hrammana? Hverjir æða eins og óargadýra um allar þorpagrundir? Er von nema björninn rumski? Hverslags fréttaflutningur er þetta eiginlega? Og svo má auðvitað spyrja: Er framferði Bandaríkjana og NATO vel til þess fallið að stuðla að heimsfriði...

7. Desember 2007

GÓÐ GREIN HJÁ EINARI

Menn skulu vita að “NATO” er „varnarbandalag“ Norður Atlantshafsþjóðanna og var stofnað af leppum Bandaríkjanna, Rússum og kommúnismanum til höfuðs. Við Íslendingar gengum í bandalagið á þeirri forsendu að um varnarbandalag væri að ræða, en þjóðin var svo sannarlega ekki einróma í þeim gjörðum og er það væntanlega ekki enn þó mikið hafi verið gert til að heilaþvo hana...
Úlfur

6. Desember 2007

LAGAHEIMILDIR SKORTIR FYRIR FRAMKVÆMDUM VIÐ ÞJÓRSÁ!


Hinn 9. maí síðastliðinn samþykktu ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar fyrir hönd ríkisins samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár án nokkurs fyrirvara í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs andmælti þessu á þeirri forsendu að þetta væri gert án heimildar í lögum og fór fram á að Ríkisendurskoðun kannaði hvort þetta stæðist lög. Í dag birti Ríkisendurskoðun niðurstöður sínar þar sem fram kemur að gagnrýni VG var á rökum reist ...

6. Desember 2007

HRÓPANDI RANGLÆTI GAGNVART LÍFEYRISÞEGUM

…Á það má benda, að einstaklingur má afla sér allt að 100 þús. kr. í vinnutekjur án þess að það komi til frádráttar ellilífeyris almannatrygginga. Hvers vegna gildir ekki það sama um greiðslur frá lífeyrissjóðum a.m.k. fyrir sömu upphæð? Það er fullkomið óréttlæti að láta þá einstaklinga sem hófu greiðslur á grundvelli blekkinga 1974 og nú eru að fara á marg verðfelldan lífeyri uppskerða svikin loforð og fyrirheit. Það er ranglæti af verstu tegund að þeir skuli   ekki í það minnsta njóta sömu réttinda og þeir sem afla sér viðbótartekna…
Gunnar Gunnarsson

5. Desember 2007

SJÓN ER SÖGU RÍKARI


...Það sem við, sem andæfðum þessum áformum, því miður vissum eða grunaði sterklega var að ákvörðun um virkjun hefði í reynd verið tekin...  Það skyldi virkjað hvað sem tautaði og raulaði. Á þessu ferðalagi okkar sáum við fjölda þungavinnuvéla... Skýringin var sögð sú að verið væri að rannsaka svæðið. Hverju barni mátti þó vera ljóst... Þetta flaug mér í hug þegar ég sá í dag plakat með myndum og spurningum frá nátturuverndar- og umhverfissamtökunum Sól á Suðurlandi. Á plakatinu má sjá framkvæmdir við Þjórsá...

5. Desember 2007

FULLVELDIÐ OG UTANRÍKISMÁLIN

Þú spyrð hvort við hefðum sætt okkur við að Danir færu með okkar utanríkismál. Það vantar illilega aftanvið setninguna. Danir fóru með utanríkismál Íslendinga í umboði Alþingis. ÖLL mál voru í höndum Alþingis með tilkomu fullveldis...
Borgþór

4. Desember 2007

ÓMETANLEG REYNSLA

Með festu gegn Putin nú fara þeir mikinn,
um fláttskap í kosningum saka þeir hann,
en til þess að kanna þar svindlið og svikin
við sendum þeim auðvitað framsóknarmann.
Kristján Hreinsson, skáld

4. Desember 2007

SEINHEPPINN KRISTINN

Birtist í Fréttablaðinu 3. des. 2007
„Hér er mikill ys og þys út af litlu tilefni,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins við umræður á Alþingi um ný þingskaparlög sem gera ráð fyrir því að horfið verði frá ótakmarkaðri umræðu við aðra og þriðju umræðu um lagafrumvörp. Fyrir sitt leyti hafði þingflokkur VG minnt á að á undanförnum tveimur áratugum hefði einvörðungu orðið verulega löng umræða um EES samninginn, sem ýmsir töldu að stæðist ekki stjórnarskrá Íslands, Kárahnjúkavirkjun, vatnalögin, einkarekinn upplýsingagrunn um heilsufarsupplýsingar, einkavæðingu Landsímans og hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins...

3. Desember 2007

HVER SKYLDU VERA VINNUKONULAUNIN HJÁ MARGRÉTI PÁLU?

Ég segi fyrir mitt leyti að mér finnst launamunurinn – á milli láglaunafólks og hátekjufólks, óháð kyni, skipta máli ekki síður en staða kynjanna. Reyndar finnst mér aðal meinsemdin í þjóðfélaginu vera vaxandi kjaramisrétti og það þarf að gæta þess að misskiptingin sé ekki einvörðungu rædd á  kynbundnum forsendum... Eins saknaði ég í Silfri Egils og það var að við skyldum ekki upplýst um launakjörin hjá einkafyrirtækinu hennar Margrétar Pálu. Ég gef mér að hún eigi fyrirtækið og stýri því þótt skattborgarinn standi straum af kostnaðinum – en hvað skyldi hún borga sínum vinnukonum?...
Sunna Sara

3. Desember 2007

FORRRÆÐISHYGGJU Á ALÞINGI ANDMÆLT


Ekki hefur það gerst í langan tíma að reynt sé að knýja fram breytingar á þingskaparlögum í blóra við þingflokk á Alþingi... Stjórnarmeirihlutinn hefur í ræðum á þingi um hið nýja frumvarp haft á orði að það sé stjórnarandstöðunni fyrir bestu að kyngja skertu málfrelsi og minna athagfnafrelsi í þinginu. „Umhyggja“ af þessu tagi kallast forræðishyggja og er ekki til eftirbreytni, ekki síst þegar um er að ræða reglur sem gilda eiga um lýðræðið... Í dag efndi þingflokkur VG til fundar með fréttamönnum til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri...

2. Desember 2007

ÞRÓUNARFÉLAG KEFLAVÍKURFLUGVALLAR – ÖLL SPIL Á BORÐIÐ!


... Atli Gíslason hefur leitt að því líkur að farið hafi verið á svig við lögin við ráðstöfun almannaeigna, þ.e. í tengslum við sölu á húsnæði á Keflavíkurflugvelli. Þetta hefur komið fram í hans máli í tvígang á Alþingi á undanförnum dögum. Hvers vegna þegja flestir fjölmiðlarnir í þessu máli og flytja nánast einvörðungu friðþægingarfréttir af því? Hvers vegna er DV nánast einn fjölmiðla – Stöð tvö að nokkru leyti einnig -  sem virðist standa vaktina í þessu  máli? Atli Gíslason, er auk þess að vera þingmaður, einn virtasti lögfræðingur landsins með langa reynslu sem hæstaréttarlögmaður. Þegar slíkur maður kveikir á varúðarljósunum  og segir að...

2. Desember 2007

EMBÆTTI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA Á AÐ VERA SMÁTT Í SNIÐUM

...Ef þjóðin telur rétt að vopna einhvern hluta lögregluliðs síns þá er rétt að leggja það til að sérsveit vopnaðra manna verði byggð upp undir stjórn lögreglustjóra á eftirtöldum stöðum með tilliti til alþjóðaflugvalla og til þess að draga úr hættunni sem fylgir því að einn maður ráði yfir þessum vopnaher: Akureyri, Egilsstaðir, Höfuðborgarsvæði og Keflavík. Ert þú tilbúinn að skara þennan eld og stöðva þessa andlýðræðislegu þróun?
Þórður Eric

1. Desember 2007

EES MÁ EKKI BYGGJA Á NAUÐUNG

Birtist í 24 Stundum 30.11.07.
Í Noregi hefur nú hafist umræða um hvort til greina komi að beita neitunarvaldi skv. EES-samningum. Tveir ríkisstjórnarflokkanna VS, Vinstri-sósíalistar og Miðflokkurinn, segja þetta koma til greina. Verkamannaflokkurinn er því hins vegar andvígur. Fyrir nokkrum misserum lýsti Gerd Liv Valla, þáverandi forseti norska Alþýðusambandsins, því yfir að sér þætti beiting neitunarvalds vel koma til álita. Núverandi forysta sambandsins hefur hins vegar ekki tekið afstöðu. Það hefur þó stærsta aðildarfélag þess gert, Fagforbundet, sem og Flutningaverkamenn.
Félögin telja að fráleitt sé að...

1. Desember 2007

FÁTÆKAR ÞJÓÐIR EIGA EKKI AÐ GREIÐA NIÐUR RAFMAGN Í REYKJAVÍK

...Hins vegar getum við lagt til einhvern skerf með þekkingu jarðvísindamanna og tækniþekkingu, sem við eigum þá að "selja" eins ódýrt og unnt er þegar í hlut eiga miklu fátækari lönd en Ísland. Góð leið til þess er að efla Jarðvísindaháskóla sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Í umræðum undanfarna daga hefur maður heyrt að Orkuveitan geti hagnast um einhverja miljarða, jafnvel tugi miljarða, á þátttökunni í REI, sem væri þá hugsanlega hægt að nota til að greiða niður orkukostnað Íslendinga. En einhvers staðar koma þeir peningar frá og maður veltir fyrir sér hvort það sé siðferðilega réttlætanlegt að láta fátækt fólk í þriðja heiminum greiða niður orkukostnað Reykvíkinga.
Jón Torfason

1. Desember 2007

MERKIISDAGUR Í SÖGU ÞJÓÐARINNAR

...Í mínum huga er fullveldisdagurinn gott tilefni til þess að íhuga hvers virði sjálfstæði þjóðarinnar er. Værum við ef til vill eins vel stödd – eða jafnvel betur – með því að afsala okkur sjálfstæði, finna okkur skjól í stærra ríki? Hefðum við sætt okkur við það til langframa að Danir færu með okkar utanríkismál, kæmi það ef til vill til álita nú að fallast á að stefna okkar í utanríkismálum yrði mótuð í Brussel, höfuðstöðvum Evrópusambandsins? Þetta er ekki sagt af tilefnislausu því margir eru þess mjög fýsandi sem kunnugt er, að Ísland gangi í hið nýja evrópska stórríki  í mótun sem Evrópusambandið óneitanlega er. Þar færist nú allt í átt til samræmdar utanríkisstefnu. Í mínum huga erum við Íslendingar, þjóð sem býr yfir sterkri sjálfsvitund, ríkri sögulegri hefð og frjóum menningararfi, betur settir sem...

1. Desember 2007

ÚT Á VINNUSTAÐINA!

...Það þýðir ekki að hver berjist fyrir sínum einkakækjum, sértrúnaði og kenndum, hver í sínu horni og enginn viti hvert skuli stefna. Fólk verður að gera sér grein fyrir þeirri alvörustundu sem upp er runnin. Það er Í ALVÖRU verið að stela eignum þjóðarinnar. Það er Í ALVÖRU verið að eyðileggja velferðarsamfélagið með því að fela það í hendur gróðaöflum, ekki bara íslenskum heldur einnig alþjóðlegum. Ef baráttan og baráttufólkið er ekki meðvitað um þetta, meðvitað um að baráttan verður að horfa til hagsmuna almenings, til þjóðarinnar; að baráttan verður að vera þjóðleg og markviss – ef menn eru ekki meðvitaðir um þetta þá...
Úlfur

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Allar greinar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta