30. September 2006
ÉG HELD HANN HEITI DOFRI...
Jónatan
30. September 2006
Í DAG FÓR HERINN – EN EKKI ARFLEIFÐIN
29. September 2006
AÐFÖRIN AÐ JÖKULSÁNUM Í SKAGAFIRÐI AFTUR Á FULLA FERÐ
Allt er til reiðu fyrir Villinganesvirkjun, aðeins skortir leyfi sveitarstjórna. Nýr meirihluti Samfylkingar og Framsóknar í sveitarstjórn Skagafjarðar hefur gefið grænt ljós á að fórna Jökulsánum og vill heimila bæði Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun á skipulagi.
Í þættinum „Ísland Í Dag“ á NFS í gærkvöldi var Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins spurður um afstöðu til virkjana í Jökulsánum í Skagafirði. Ráðherrann svaraði spurningunni á þann veg að virkjanaáformin í Jökulsánum væru mjög skammt á veg komin og aðeins hefði verið veitt rannsóknaleyfi fyrir Villinganesvirkjun en virkjunarleyfi hefði ekki verið veitt.
Þetta er rangt hjá ráðherranum. Með...
Skagfirðingur
27. September 2006
MEÐ KÁRAHNJÚKA Á HEILANUM?
Kalli
26. September 2006
ÍTALÍUÞANKAR
...Ítalíumegin landamæranna á Rívierunni – aðeins upp til fjalla - er þorpið Dolceacqua. Þangað fórum við á laugardagskvöldið. Þar sáum við sýningu, ítalska ljósmyndarans Eugenio Andrighetto á ljósmyndum sem hann tók í Íslandsferð sinni sumarið 2000. Myndirnar voru í einu orði sagt, stórkostlegar og fékk ljósmyndarinn lófaklapp að sýningu lokinni. Ekki síst þótti fólki mikið til fossamynda Eugenios Andrighettos koma. Þar í bland var fossaröðin sem drekkt verður í Hálslóni við Kárahnjúka. Um það var ekki rætt á sýningunni í Dolceacqua. Ég held að í salnum þar sem sýningin fór fram hefði enginn trúað því að til stæði að eyðileggja þessa fegurð. Í lesnum texta Eugenios Andrighettos með myndunum, sagði að á Íslandi væri menntaðasta og gjörvulegasta þjóð í heimi! Eugenio var ekkert að draga af sér þegar hann lýsti aðdáun sinni á Íslandi og Íslendingum. Sennilega hafði hann ekki ...25. September 2006
Rúnar Sveinbjörnsson: ÁBENDINGAR TIL LEYNIÞJÓNUSTU RÍKISINS
24. September 2006
HORFT TIL KÁRAHNJÚKA AF HLAÐINU Á HÓLUM Í HJALTADAL
„Ég er hrædd um að þau sem ganga um Kárahnjúkasvæðið í nánustu framtíð og lesa á skilti , hér rann Kringilsá, hér féll Tröllafoss, hér var Hafrahvammagljúfur, blessuð sé minning þeirra, muni ekki líta á verkið sem sjálfsbjargarviðleitni rísandi þjóðar heldur grátlegan hroka velmegunarríkis sem kunni sér ekki magamál.“ Þetta eru niðurlagsorðin í áhrifaríkri útvarpsmessu frá Laugarneskirkju í dag þar sem séra Hildur Eir Bolladóttir prédikaði. ... Af hlaðinu á Hólum í Hjaltadal veltir Hildur Eir fyrir sér muninum á þörf og græðgi. Hún vitnar til þess þegar verið var að blessa Auðunnarstofu hina nýju, tilgátuhús, sem reist var til að heiðurs Auðunnarstofu hinni fornu, sem byggð var á 14. öld, en rifin í miklum harðindum um 1810 til að ...22. September 2006
FREISTINGIN OG KÁRAHNJÚKAR
Í magnaðri grein sem birtist í Morgunblaðinu nýlega eftir dr.
21. September 2006
FORSTJÓRI ALCOA SVARAR ÚT Í HÖTT
Sveinn
21. September 2006
PÓLITÍSK MISNOTKUN ÚTVARPSSTJÓRA
20. September 2006
ÁHUGAVERÐ RÁÐSTEFNA UM SÁTTAFERLI Á ÁTAKASVÆÐUM
Föstudaginn 22. september verður haldin ráðstefna í Hafnarfjarðarkirkju um "sáttaferli á átakasvæðum heimsins með erlendum sáttasemjurum í fremstu röð". Í fréttatilkynningu segir á meðal annars um fyrirlesara og viðfangsefni “Dr. Rodney Petersen forstöðumaður Guðfræðistofnunarinnar í Boston, Boston theological Institute og dr. Raymond Helmick S. J., Jesúítaprestur og alþjóðlegur sáttasemjari til fjölda ára hafa þróað og beitt árangursríkum aðferðum til sáttaumleitana á átakasvæðum m.a. á Balkanskaga, Norður-Írlandi og í Landinu helga.”...Fyrir mitt leyti þykir mér þetta vera afar áhugavert viðfangsefni og kemur þá fyrst upp í hugann sáttaferlið í Suður-Afríku sem Desmond Tutu stóð í fararbroddi fyrir. Með sáttaferlinu tókst Suður-Afríkumönnum að rjúfa vítahring hatursins sem einkennir helstu samfélög á helstu átakasvæðum heimsins... 20. September 2006
MÓÐUHARÐINDI Í NÁND?
Jón Bisness, athafnaskáld
18. September 2006
Í UNDRALANDI MEÐ DAVÍÐ ODDSSYNI

Hinn 1. september birti Ríkisútvarpið viðtal Ólafar Rúnar Skúladóttur við Davíð Oddsson, núverandi seðlabankastjóra og fyrrverandi forsætisráðherra, þar sem komið var inn á þetta málefni. Viðtalið er mjög upplýsandi fyrir afstöðu og vinnubrögð þessa fyrrum verkstjóra í ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Í viðtalinu er Davíð Oddsson spurður um fyrrnefnda skýrslu Gríms Björnssonar og segir hann meðal annars: "Ég skil svo sem ekkert í þessari umræðu, þessi skýrsla er búin að liggja fyrir í 3-4 ár. Hennar er getið í bók sem kom út árið 2003 og ég veit ekki hverskonar leyniskýrsla það er sem er getið sérstaklega á prentuðum bókum og allt í einu er þetta orðin merkileg leyniskýrsla. Það er hins vegar þannig að Alþingi ...
18. September 2006
HVAÐ ER AÐ GERAST VIÐ EYJABAKKA?
Guðrún Beta
17. September 2006
DOFRI, VG OG UMHVERFISSTEFNAN
Sjálfur var ég á sínum tíma fylgismaður Samfylkingarinnar og trúði á fagurgalann um hina umhverfisvænu stefnu. Eftir atkvæðagreiðsluna um Kárahnjúka ákvað ég að ég myndi ekki framar láta sannfærast af fögrum orðum. Eftirleiðis yrðu stjórnmálamenn að sýna mér hug sinn í verki. Síðan hef ég fylgt VG að málum og líkar það vel. Þar er stefnan skýr.
Umhverfisvænn félagi í VG
17. September 2006
JÓN BJARNASON SPYR AÐ GEFNU TILEFNI: HVENÆR LÆRA MENN AF REYNSLUNNI?
... Í grein sinni segir Jón Bjarnason m.a. : " Nú í gær varð bilun í ljósleiðara á Norðurlandi með þeim afleiðingum að öryggiskerfi sjófarenda fyrir öllum Vestfjörðum og Norðurlandi féll út svo og útsendingar útvarps og sjónvarps á mörgum stöðum sem einnig eru hluti öryggiskerfis landsmanna. Bilunin stóð í 15 klukkustundir."Og Jón Bjarnason rifjar upp: "Í kjölfar sölu Símans fylgdu uppsagnir á starfsfólki og lokun starfsstöðva víða um land, hækkað verð og skert þjónusta. Þetta gerðist á Ísafirði, Blönduósi, Sauðárkróki Siglufirði já hringinn í kringum landið hefur þjónustustöðvum verið lokað og íbúarnir bera skarðan hlut.... Jón Bjarnason hafði forgöngu um það á sínum tíma að þingflokkur VG bar fram tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort einkavæða ætti Landsímann. Sú tillaga fékk ekki stuðning annarra flokka á Alþingi en Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Það er ekki að undra að Jón Bjarnason velti því fyrir sér hvort...
17. September 2006
MÁLSTAÐUR OG MÁLFLUTNINGUR HJÁLMARS ÁRNASONAR
...Við erum kallaðir lygarar, menn sem “sannleikurinn virðist engu skipta” því “tilgangurinn helgi meðalið”. Hjálmar telur að jafnharðan og flett sé ofan af lygum okkar séum við komnir fram með ný ósannindi. “Í stað þess að skammast sín fyrir lygarnar og ásakanirnar búa þeir til nýtt leikrit sem hefst á því að Ögmundur gengur af fundi iðnaðarnefndar og baðar út öllum öngum í fjölmiðlum. Nú er það leynd Landsvirkjunar sem er glæpurinn...”
Ekki ætla ég mér að reyna að hafa áhrif á hvernig formaður þingflokks Framsóknarflokksins hagar málflutningi sínum, hvaða orð hann notar og hvernig. Það er hans mál.
Lesendum til glöggvunar vil ég hins vegar...
16. September 2006
HVERS VEGNA EKKI ÁLYKTUN 377?
Jón Þórarinsson
16. September 2006
Jón Bjarnason: ÞAÐ ÁTTI ALDREI AÐ EINKAVÆÐA LANDSÍMANN
Allt þetta...
16. September 2006
TEKIÐ UNDIR MEÐ ÖRYRKJABANDALAGINU
...Að mínu mati ber lífeyrissjóðunum tvímælalaust að haga reglum sínum á þann veg að framreikningurinn byggi á launavísitölu en ekki neysluvísitölu. Aðeins með því móti fæst samsvörun við launakjörin, sem fyrirheit voru um að tryggja.
Almannatryggingakerfið þarf að koma betur til móts við öryrkja en nú er gert. Þetta þarf að
15. September 2006
EKKI LESA ÞETTA, ÞAÐ ER EKKERT AÐ MARKA MIG!
Þjóðólfur
15. September 2006
EKKI ÁL Í ÖLL MÁL
Bestu kveðjur,
Jón Þórarinsson
14. September 2006
UMHVERFISÁHERSLUR SAMFYLKINGARINNAR - TRÚVERÐUGAR?
Snjólfur.
14. September 2006
BERJUMST FYRIR OPNU ÞJÓÐFÉLAGI
Sigurbjörn Halldórsson
14. September 2006
VERNDUM HÁLENDI AUSTURLANDS
Í yfirlýsingu segir einnig um markmið félagsins: "Nú berst það einnig fyrir öryggi og heill íbúanna. Þess er krafist að óháð matsnefnd meti áhættu og arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og fyrr verði engu vatni hleypt á Hálslón. Við viljum að fólk geti vegið og metið af skynsemi hvort ekki sé heillavænlegast að eiga víðernin og vistkerfin áfram og þar með að eyða þeirri ógn sem af Kárahnjúkavirkjun stafar í byggð. Minnumst þess að ...
14. September 2006
FÓLKIÐ VERÐI RÁÐIÐ Á KEFLAVÍKURFLUGVÖLL !
Jón Þórarinsson
13. September 2006
Helgi Guðmundsson skrifar: ÞÖGNIN ÆPIR
13. September 2006
GÓÐUR BOÐSKAPUR FRÁ BESSASTÖÐUM

...Ólafur Ragnar Grímsson sagði það vera miður hversu mörg samfélög heimsins væru byggð á vantrausti. Hryðjuverkaöfl mættu ekki ná þannig tökum á hugsunarhætti og hegðun fólks að samfélaginu væri gjörbreytt og umturnað.: "Ef að það gerðist, þá væru hryðjuverkaöflin búin að ná þeim árangri að þau gætu svo sannarlega hrósað sigri. Og framlag Íslands, í þessum nýja heimi eftir 11. september, er kannski fyrst og fremst það að sýna í verki að þrátt fyrir allt þá sé hægt að vera með þjóðfélag sem er opið og öruggt og frjálst og lýðræðislegt, án þess að reisa varnarmúra tortryggni og ótta. Við séum samfélag sem byggir á því að treysta öllum, þar til það kemur í ljós að það er ekki hægt að treysta þeim. "
Undir þetta skal tekið. Einu má bæta við. Það eru því miður ekki aðeins ...
13. September 2006
ÖLL SPIL Á BORÐIÐ
Helgi Geirsson
12. September 2006
FRAMSÓKNARFLOKKURINN OG "FYRIRTÆKI ÚTI Í BÆ"
...við skyldum ekki gleyma því að þessar framkvæmdir eru á vegum fyrirtækja í almannaeign: Landsvirkjun er jú í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar og Akureyrar og allar framkvæmdir á hennar vegum eru á ábyrgð skattborgarans!!! Þetta er öllum augljóst – nema náttúrlega Framsókn. Birkir Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gegnir embætti formanns iðnaðarnefndar nú um stundir. Hann kom fram í fréttum og lýsti furðu á því að alþingismenn vildu upp á dekk gagnvart fyrirtæki úti í bæ með því að krefjast þess að það opni bókhald sitt gagnvart almenningi. Stundarkorn velti ég því fyrir mér hvort væri fyrirtækið úti í bæ, Alcoa eða Landsvirkjun. Ég komst að sömu niðurstöðu og klippari Sjónvarps, sem myndskreytti tilvísun Birkis til fyrirtækisins úti í bæ með merki Landsvirkjunar. Látum vera þótt þingmanni Framsóknarflokksins finnist það vera...12. September 2006
LANDSVIRKJUN OG HJÁLPARSAMTÖKIN IMPREGILO
Sveinn
11. September 2006
HVERJIR VILDU ÞJÓÐARATKVÆÐAGREÐILSU UM KÁRAHNJÚKA?
Sunna Sara
11. September 2006
EKKERT LEYNIMAKK – ÖLL SPILIN Á BORÐIÐ !
10. September 2006
Guðjón Jensson: VERÐUR LANDSVIRKJUN TEKIN UPP Í SKULD?
Nú má vera freistandi að leggja saman tvo og tvo: var þessu fyrirtæki sigað á hálendi Íslands til að rétta það af fjárhagslega? Við þurfum að fá einhvern sérfræðing í fjármálum að fara í þessa sauma. Mér sýnist á heimasíðu Impregíló...
9. September 2006
BUSH SVARI TIL SAKA - GÓÐUR GAGNABANKI
Umrædd grein heitir: We used to impeach liars. Á íslensku myndi þetta útleggjast, Við vorum vön að ...
Haffi
9. September 2006
UPPLÝSINGAFULLTRÚI HERSINS UPPLÝSIR - MEIRA EN RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS GERIR

Eftir að NFS fréttastöðin gekkst í málið hefur upplýsingafulltrúi bandaríska hersins hér á landi upplýst að búið sé að loka hinum herstjórnarlega þætti loftferðakerfis hersins hér á landi. Þetta þýðir að þótt ratsjárstöðvarnar séu enn til staðar er ekki lengur tekið við merkjasendingum þaðan. Enn er tekið á móti merkjasendingum til íslensku flugumferðarstjórnarinnar – sendingum sem þjóna almennri flugumferð. En hversu lengi? Íslensk stjórnvöld verða að svara því hvort um þetta hafi verið gerðir samningar og til hve langs tíma. Slíkur hefur rolugangurinn verið, að hreinlega öllu er trúandi upp á ríkisstjórnina í þessu efni. Ár eftir ár ...
8. September 2006
RANNSÓKNARSTOFNUN Í JARÐVÍSINDUM REIST Á RÚSTUM HERSTÖÐVAR
Andrea
7. September 2006
HVERNIG VÆRI AÐ GLUGGA Í DAHLGREN?
...SA þykist vilja leita hagkvæmustu leiðanna við skipulag og rekstur heilbrigðisþjónustunnar. Ekki er ég mótfallinn því. En þá skulum við líka leita í alvöru. Við skulum kynna okkur reynslu annarra af einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar. Hvernig væri til dæmis að byrja að lesa bækling eftir Göran Dahlgren, einn fremsta sérfræðing á Norðurlöndum á þessu sviði, en hann hefur gagngert rannsakað kerfisbreytingar í heilbrigðiskerfinu með tilliti til þjónustu og kostnaðar. Niðurstaða Görans Dahlgrens er sú að einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar hafi, þegar á heildina er litið, gert þjónustuna dýrari auk þess sem félagslegt misrétti hafi aukist. Viljum við það? Leiðarahöfundur Morgunblaðsins – sá sem í vikunni skrifaði leiðara um þetta efni undir yfirskriftinni, Einkarekinn valkostur, mætti einnig gjarnan...
7. September 2006
MENN TAKI EINA MAGNIL OG ...
Helgi Geirsson
5. September 2006
MÁLEFNI KEFLAVÍKURFLUGVALLAR EIGA AÐ VERA Í BRENNIDEPLI
Haraldur Magnússon
5. September 2006
ÍSLENDINGAR EIGA AÐ GANGA ÚR SCHENGEN STRAX !
Úlfljótur
5. September 2006
LÆKNISFRÆÐI EÐA HAGSMUNABARÁTTA?
Afleitt er þegar læknar og hjúkrunarfólk ruglar saman starfi sínu innan heilbrigðiskerfisins annars vegar og löngun til að græða peninga í bisniss hins vegar. Látum það vera þótt starfsmenn innan heilbrigðisþjónustunnar vilji fá vel greitt fyrir sín störf. Ekki er ég andvígur því þótt þar vilji ég fyrir alla muni að horft sé til réttlátrar skitpingar á milli starfsfólksins. Verra er þegar þessir aðilar vilja umbylta heilbrigðisþjónustunni í bisnissrekstur til að hagnast á henni. Þetta kom upp í hugann þegar okkur voru sagðar þær fréttir af þingi Læknafélags Íslands um helgina að nú þyrfti að fara að reisa einkasjúkrahús í samvinnu við peningamenn! Athygli vakti orðalagið í gagnrýni á sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík en samkvæmt fréttum RÚV lítur Læknafélagið svo á að... 4. September 2006
SAMFYLKINGIN STUDDI KÁRAHNJÚKAVIRKJUN
Jón Þórarinsson
2. September 2006
ÞÖRF Á MEIRI FAGMENNSKU Í FRÉTTIR
Haffi
2. September 2006
ÞURFUM BETRI FRÉTTAMENNSKU
Hjörtur Hjartarson
1. September 2006
PRÓFDÓMARINN

...Davíð Oddsson, seðlabankastjóri hefur aðra skoðun á þessu máli. Það er honum að sjálfsögðu frjálst að hafa og ekkert nema gott um það að segja ef ekki væri fyrir þær sakir að Ríkisútvarpið gerir hann að eins konar prófdómara í þessu máli. Þegar menn opnuðu vefsíðu Ríkisútvarpsins í morgun gat þar að líta flennimynd af Davíð Oddssyni. Fyrirsögn stórfréttar Ríkisútvarpsins var einkunnagjöf þessa merka álitsgjafa: Davíð Oddsson segir umræðu um Grímsskýrslu vera vitleysu...
1. September 2006
KASTLJÓSIÐ OG KÁRAHNJÚKADROTTNINGIN
Þorleifur
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIÐLAR SKOÐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












