31. Desember 2006
Jón Bjarnason skrifar: AÐ HOPPA EINS OG KÖTTUR Í KRINGUM HEITAN GRAUT!
31. Desember 2006
SÖGULEGUR OG TÁKNRÆNN FÁNI !
Ég ber mikla virðingu fyrir Pétri Kristjánssyni og hafi hann þökk og heiður fyrir framtak sitt. Ég vona að þessi heiðursgjöf hans verði hvatning til þess að íslenskir fánar verði í hávegum hafðir miklu meir en áður hefur verið! Hvarvetna sem ...
Helgi
30. Desember 2006
ANDSTAÐA VIÐ STÉTTARFÉLÖG
...Enda þótt óskiljanleg kergja sé í flestum stjórnum hlutafélagavæddra fyrirtækja gagnvart starfsmönnum og stéttarfélögum virðist stjórn Matís ohf ætla að slá flest fyrri met. Félagið neitar nefnilega að gera rammasamkomulag sem vísar inn í framtíðina við stéttarfélög hins nýja fyrirtækis. Friðrik Friðriksson, formaður stjórnar Matís ohf, lýsti því yfir á fundi með starfsmönnum skömmu fyrir hátíðar að ekki stæði til að leggjast yfir kjarasamningsgerð með stéttarfélögum. Þess í stað hafa starfsmenn verið króaðir af einn og einn þar sem þeim hefur verið boðið að skrifa undir ráðningarsamninga sem forsvarsmenn stéttarfélaganna segja vera afar ...
30. Desember 2006
Kristján Hreinsson skrifar: TIL HAMINGJU ÍSLAND
Með þá von í brjósti að ég geti staðið við haug Framsóknarflokksins eftir kosningarnar í vor birti ég hér síðustu vísu bókarinnar:
Framsókn að endingu farið nú hefur
til feðranna sinna á nábleiku skýi,
banamein flokksins var blekkingavefur,
bitlingasýki og inngróin lygi.
30. Desember 2006
HEIÐURSMAÐUR GEFUR ÍSLENSKA FÁNANN

Ég varð í gær þess mikla heiðurs aðnjótandi að taka við íslenska fánanum að gjöf frá Pétri Kristjánssyni, sem Reykvíkingum og landsmönnum mörgum er að góðu kunnur fyrir óeigingjörn störf um áratugaskeið. Varla hefur sá atburður átt sér stað í höfuðborginni þar sem þurft hefur að setja upp öflugan eða flókinn hljóðbúnað að Pétur hafi ekki stýrt þar málum. Pétur Kristjánsson er auk þess ötull félagsmálamaður, vakinn og sofinn í starfi fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og þar með BSRB.
Við afhendingu fánans lagði Pétur áherslu á nauðsyn þess að hafa íslenska fánann í heiðri og skyldu Vinstri græn minnast þess í komandi kosningabaráttu og í kjölfarið, hugsanlega við stjórnvöl landsins, að þeim vegnaði vel sem...
30. Desember 2006
ER VG Á MÓTI ÖLLUM ÁLVERUM?
Jón Þórarinsson
30. Desember 2006
ÆTLAR VÆNTANLEGUR FRAMBJÓÐANDI EKKI AÐ FAGNA KRATASTEFNU?
Kveðja Sáfi
29. Desember 2006
VEIT NÚ HVAÐ HLUTAFÉLAGAVÆÐING ÞÝÐIR
Hlutafélagavæddur ríkisstarfsmaður
29. Desember 2006
VG OG HÖFÐUBORGARSVÆÐIÐ – TILLÖGUR UM UPPRÖÐUN LÍTA SENN DAGSINS LJÓS
Vinstrihreyfingin grænt framboð mun nú fyrir áramótin skýra frá tillögum kjörnefndar til uppstillingar á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Efnt var til forvals í byrjun desember og á grundvelli þess er síðan raðað upp á lista á kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavík suður, Reykjavík norður og í Suðvestur kjördæmi, Kraganum sem svo er oft nefndur...Breytt kjördæmaskipan kallar á nýja hugsun og vísar það skref sem Vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu hafa stigið með því að líta á höfuðborgarsvæðið heildstætt inn í nýja framtíð...28. Desember 2006
TRAUSTARI LAGAGRUNDVÖLL GEGN SPILAKÖSUM
Árni Þór Sigurðssson
28. Desember 2006
Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: SPILAFÍKN - ALLT ER SAGT. NÚ ÞARF FRAMKVÆMDIR!!!
28. Desember 2006
SÓL Í STRAUMI MÆTIR ÁLJÖF MEÐ 10 MÁLEFNALEGUM RÖKUM

Náttúruverndarsamtökin Sól í Straumi, sem beita sér gegn stækkun álvers Alcans í Straumsvík í Hafnarfirði og almennt í þágu náttúruverndar og heilbrigðrar skynsemi, brugðust við álgjöf Alcans með því að færa fulltrúum álrisans 10 röksemdir gegn stækkun álversins. Mútugjöf Alcans var þannig mætt á málefnalegan hátt. Gjöf Alcans er augljóslega ætlað að kaupa álverinu vinsældir í aðdraganda kosningar um deiliskipulag fyrir stækkun álversins. Gjöfin er ætluð öllum kjósendum í Hafnarfirði! Hún er álinnpakkaður hljóm- og dvd- diskur vinsæls hljómlistarmanns og hefur ekkert með ágæti eða ókosti stóriðjustefnunnar að gera. Þess vegna er réttmætt að tala um mútugjöf. Það er þekkt bragð hjá aðilum með vafasaman málstað að reyna að vinna honum fylgi með því að beina umræðunni frá málefninu og helst að tengja málstaðinn einhverju allt öðru, þess vegna hugljúfum tónum vinsæls listamanns.
Þegar félagar í Sól í Straumi skiluðu...
27. Desember 2006
HÚRRA FYRIR FÍLADELFÍU
Bjarni
27. Desember 2006
SÉRA GUNNAR FÓR TIL BETLEHEM
Ég sagði hér á síðunni að mér fyndist að prestar landsins ættu að bregða sér til Betlehem samtímans í jólapredikunum sínum, ekki láta sér nægja að bregða upp mynd af atburðum þaðan fyrir tvö þúsund árum. Sú kúgun sem fólk á þar við að stríða núna hlyti að verða mönnum umfjöllunarefni. Mér var bent á að þetta hefði einmitt verið viðfangsefni í jólamessum prófastsins á Kjalarnesi, séra Gunnars Kristjánssonar á Reynivöllum í Kjós. Oft hef ég vitnað í frábærar predikanir séra Gunnars og geri nú enn. Í upphafi predikunar hans í jólamessu á Reynivöllum komst hann svo að orði: “Ég er að fara til Betlehem og ætla að vera þar yfir jólin” sagði kunningi minn þegar ég hitti hann fyrir nokkrum dögum. “Til Betlehem...” Upp í hugann kom myndin af Maríu og Jósef á leið yfir fjöllin til litla þorpsins sem er táknmynd í hugum kristinna manna. Þau voru einnig á leið til Betlehem. Við vorum í Litlu kaffistofunni vestan til á Hellisheiði. Barnabörnin, sem voru með afa á leið í Kjósina, hættu skyndilega að drekka skyrdrykkinn sinn þegar kunningi minn, sem er læknir, sagði þessa setningu: “Ég er að fara til Betlehem.” Svo bætti hann við að hann ...25. Desember 2006
BETLEHEM FYRR OG NÚ
Í Betlehem er barn oss fætt, er sungið um jólin þegar fólk minnist fæðingar Krists. Okkur er innrætt að jólin eigi að vera tilefni til göfugrar hugsunar. Prestarnir predika um mannkærleikann og boðskapur réttlætis og friðar er í hávegum hafður. Allt of mörgum þykir það hins vegar vera þægilegra að hugsa um tvö þúsund ára réttlæti eða ranglæti, eftir atvikum, en veruleika samtímans sem kallar á afstöðu okkar hér og nú. Í dag heyrðum við í fréttum Svein Rúnar Hauksson, lækni og formann félagsins Ísland-Palestína, tala frá Betlehem. Hann hafði komist til borgarinnar í fylgd biskups frá Jerúsalem, að því er mér skildist (eða var það biskupinn af Kantaraborg sem einnig var í Jerúsalem í dag?). Borgin er nánast eins og lokað fangelsi, umlukt múrum og umsetin ísraelsku hernámsliði. Þetta ætti að vera umfjöllunarefni úr hverjum predikunarstól á jólum meðan þetta kúgunarástand varir. Orð Sveins Rúnars voru ...24. Desember 2006
LÖGGÆSLA OG ALMENN ÖRYGGISGÆSLA Á HENDI OPINBERRA AÐILA
...Móðgunargjörnum mönnum í opinberri þjónustu þætti þetta eflaust tilefni til þess að stinga niður penna og fara fram á afsökunarbeiðni. Það er þó fráleitt að persónugera málin með þessum hætti á hvorn vænginn sem er, hinn opinbera eða hinn einkarekna. Á báðum stöðum vinnur örugglega ágætt fólk, upp til hópa. Spurningin snýst hins vegar um fyrirkomulag, þau lög og þær reglur sem fólk starfar samkvæmt, þá menntun sem tilskilin er til að gegna tilteknum störfum og þau markmið sem stofnanir og fyrirtæki starfa samkvæmt. Þetta hefur ekkert með "lögun og innræti" einstaklinganna að gera eins og framkvæmdastjóri SVÞ talar um í grein sinni þegar hann gerir stjórn BSRB upp skoðanir...
24. Desember 2006
RÁÐHÚSIÐ SÝNIR REISN
...Vonandi boðar þetta lífsmark borgarráðs og borgarstjóra breytta tíð. Það er staðreynd að tveir aðilar eru háðir spilakössunum. Annars vegar eru það spilafíklar, sjúkt fólk sem fjármagnar nýbyggingar hjá Háskóla Íslands, húsnæði undir Guðfræðideildina, Siðfræðistofnun og Viðskiptaskor. Hins vegar eru það þeir aðilar sem fá tekjur sínar frá spilakössunum sem eru þeim háðir. Þetta eru hinir raunverulegu fíklar. Ég hef oft orðið var við reiði þessara aðila þegar amast er við starfsemi þeirra. Ég skildi snemma hvers vegna fáir tóku undir með mér í þinginu að andæfa gegn spilakössunum. Smám saman rann það upp fyrir mér að það er ekki aðeins HÍ sem var undir heldur einnig Rauði Krossinn og Slysavarnarfélagið og fleiri fjölmenn og vinsæl félög. Gæti fjölmennið, vinsældirnar og góður málstaður þessara félaga vera ástæðan fyrir því að þau eru látin komast upp með að níðast á veiku fólki...?23. Desember 2006
MENN HÆTTI AÐ STINGA HÖFÐINU Í SANDINN - STÓRIÐJAN ER VANDINN
23. Desember 2006
HVERS VEGNA LEYFA FJÖLMIÐLAR RÁÐHERRUM AÐ RUGLA?
Haffi
22. Desember 2006
TALAÐ AF VANÞEKKINGU UM LYFJAMÁL
Sigurður Sigurðarson
22. Desember 2006
HVERJIR HAFA METNAÐ GUNNAR?

...Þykir mönnum þetta vera æskileg þróun? Er það æskilegt að fyrirtækin taki með beinum hætti “þátt í menntun barnanna okkar, eins og þau taka í auknum mæli þátt í stuðningi við íþróttastarf, menningu, listir og svo framvegis," svo vitnað sé beint í orð Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi. Á undanförnum árum hefur stefna stjórnvalda verið sú að lækka skatta við fyrirtæki en hvetja þau síðan til að koma með “frjáls” fjárframlög til lista, menningar, líknarstarfsemi og nú menntunar skólabarna. Skyldu menn hafa hugsað til enda hvað þetta þýðir fyrir lýðræðið í landinu? Í stað þess að skattar séu innheimtir og lýðræðislega kjörnir fulltrúar ráðstafi þeim síðan í þágu samfélagsins, eru það nú fjármagnseigendurnir sjálfir sem ákvarða hver skuli menntast og hvernig, hvaða listamaður skuli hljóta náð, hvaða safn verði sett á vetur og hvaða velferðarstarfsemi komist af. Með því að flytja fjárveitingarvaldið frá almenningi og fulltrúum hans til fyrirtækja og fjármálamanna er grafið undan lýðræðinu og við færð nær byrjunarreit 20. aldarinnar þar sem...
20. Desember 2006
VILJA LÖGMENN SEGJA SIG ÚR LÖGUM VIÐ SAMFÉLAG SITT?
...Það má vissulega deila um þá ákvörðun löggjafans að breyta niðurstöðu Kjaradóms á sínum tíma þótt Héraðsdómur taki sérstaklega fram að um þetta geri hann ekki ágreining. En að með ákvörðun sinni hafi Alþingi rýrt sjálfstæði dómstólanna þykir mér sem áður segir harla langsótt. Við skulum ekki gleyma því að fyrrverandi skipan þótti mörgum – þar á meðal þeim sem þetta ritar - aldrei við hæfi því dómarar komu sjálfir að tilnefningu fulltrúa í Kjaradóm og höfðu þannig óbein tengsl við þann sem úrskurðaði um þeirra eigin kjör...Hvers vegna ættu þeir að vera heilagar kýr? Og á meðal annarra orða; er ekki svoldið skondið hve mikinn skilning lögmenn hafa á kjörum lögmanna...?20. Desember 2006
AFMÆLI FFR OG NÝR VEFUR
Síðastliðinn föstudag fögnuðu félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins 60 ára afmæli félagsins en það var stofnað 13. desember 1946, sama ár og Íslendingar fengu yfirráðarétt yfir Reykjavíkurflugvelli frá Bretum og tóku um leið við flugstjórn á Norður-Atlantshafssvæðinu. Stofnfélagar FFR voru 26 en nú eru félagsmenn um 160 talsins. Í tilefni afmælisins var opnuð glæsileg heimasíða FFR og er slóðin á hana...20. Desember 2006
Gestur Svavarsson skrifar: HAFNFIRSK UMHUGSUNAREFNI
18. Desember 2006
HVOR GEKK AF FUNDI VEGNA VERÐLEYNDAR, STEINUNN VALDÍS EÐA ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR?

...Á fundinum var þess krafist að stjórnarmenn hétu því að fara leynt með upplýsingar um raforkuverðið! Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður í Landsvirkjun og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, lagði þá fram tillögu um að leynd yrði aflétt og færði fyrir því rök. Enginn stjórnarmaður treysti sér til að styðja tillögu Álfheiðar en einn sat hjá, væntanlega Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fulltrúi Samfylkingar. Í Morgunblaðinu er haft eftir Steinunni Valdísi “að litlu hafi mátt muna að hún hafi fylgt í fótspor Álfheiðar Ingadóttur og gengið af stjórnarfundi” vegna kröfunnar um verðleynd. Þetta þótti Morgunblaðinu greinilega slík tíðindi að með fréttinni af útgöngu Álfheiðar var birt mynd af stjórnarmanninum sem næstum gekk út en ekki hinum sem lagði fram tillöguna og ...
18. Desember 2006
HVAÐA MANNRÉTTINDI STANDA EIGNARRÉTTI FRAMAR?
Jóhann J. Ólafsson.
17. Desember 2006
MIKIÐ UM LEIKREGLUR – MINNA UM SIÐFERÐI OG DÓMGREIND
17. Desember 2006
EINKAVÆÐING OG SKERT ÞJÓNUSTA
Grímur
107 Reykjavík
16. Desember 2006
ER JÓN AÐ KASTA REKUNUM Á FRAMSÓKN?
Haffi
16. Desember 2006
VIÐSKIPTARÁÐIÐ, EINKAFRAMKVÆMDIN OG FRÉTTASTOFA SJÓNVARPS

...Í framhaldi af lofgjörð um ágæti einkaframkvæmdar var haft eftir Viðskiptaráðsmönnum að vænta mætti frekari einkaframkvæmdar á komandi árum og var þar m.a. vísað til vegaframkvæmda. Hvernig væri nú að fréttastofa Sjónvarps legðist í sjálfstæða rannsókn á kostum og göllum einkaframkvæmdar. Til dæmis mætti kanna nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um einkaframkvæmd í vegagerð þar sem þessi kostur er ekki talinn ákjósanlegur fyrir skattgreiðendur... Einkaframkvæmd felur það hins vegar í sér að veita einkaaðila beinan eða óbeinan aðgang að skatthirslum almennings. Hvergi hefur verið gengið lengra á þessari braut en í Bretlandi. Þar hefur einkaframkvæmd reynst afar illa og hafa sérstaklega verið brögð af "framúrkeyrslum"! Í Bretlandi hefur og myndast eftirmarkaður með skóla og aðrar velferðarstofnanir þar sem einkaframkvæmdarsamningar ganga kaupum og sölum!
Á þessari heimasíðu hefur talsvert verið fjallað um rannsóknir á þessu efni og vísa ég hér í ...
15. Desember 2006
MISVÍSANDI UPPLÝSINGAR UM MANNAFLAÞÖRF Í HEILBRIGÐISKERFINU

...Sannast sagna ætla ég að leyfa mér að halda því fram að heilbrigðisþjónustan verði ekki afgreidd með alhæfingum af þessu tagi eins og skýrsluhöfundar Sivjar Friðleifsdóttur frá Hagfræðistofnun HÍ,
14. Desember 2006
Kristján Hreinsson skrifar: SPÁÐ Í SPILLINGUNA...
14. Desember 2006
GÓÐ HUGVEKJA UM RÚRÍ
Ólöf
14. Desember 2006
BSRB FAGNAR ÁKVÖRÐUN RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ HVERFA FRÁ EINKAVÆÐINGU ÖRYGGISGÆSLU Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að færa öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli undir opinbera aðila að nýju. Eins og fram kom í fjölmiðlum í sumar var einkafyrirtæki falið að annast hluta öryggisgæslunnar gegn hörðum mótmælum Landssambands lögreglumanna, Tollvarðafélags Íslands og heildarsamtakanna BSRB. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er í samræmi við ...
13. Desember 2006
HVERS VEGNA HUNSAR ÞINGMEIRIHLUTINN LÝÐHEILSUSTÖÐ?
Í rannsóknarskýrslu sem unnin er af Lýðheilsustöð og Háskólanum á Akureyri og er hluti fjölþjóðlegrar samanburðarrannsóknar kemur fram að börn sem búa við fátækt á Íslandi hreyfi sig minna en önnur börn, borði sjaldnar hollan mat og séu líklegri til að vera of þung og feit en börn efnameira fólks. Í Morgunblaðinu í dag er leitað eftir viðbrögðum stjórnvalda við þessum niðurstöðum...Ég gef lítið fyrir orð ríkisstjórnar sem skrifar undir alla fínu sáttmálana í útlöndum, gefur út fjálglegar yfirlýsingar um mikilvægi þess að hafa heilbrigði að leiðarljósi við stefnumótun en gerir síðan eitthvað allt annað. Hvers vegna skyldi Lýðheilsustöð hafa verið sett á laggirnar fyrir þremur árum? Til að monta sig af framtakinu? Til að virða orð hennar, viðvaranir og ábendingar að vettugi? Hvers vegna er fremur hlustað á sjónarmið gosdrykkjaframleiðenda en talsmenn hollustunnar? Væri ekki rétt að...13. Desember 2006
VERÐSAMRÁÐ FYRIR OPNUM TJÖLDUM
Baldur
12. Desember 2006
ÖLL SKYNJUM VIÐ ERINDIÐ
...Þannig hefur Samfylkingin lýst vilja til að hafa umhverfis- og náttúruverndarsjónarmið meira í hávegum og hefur þar verið vísað í stefnumótunarplagg flokksins frá því í haust. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu sl. laugardag, undir fyrirsögninni, Nú skynja ég erindið, að flokkur sinn sé “eini flokkurinn sem hefur lagt fram skýrar tillögur til framtíðar um hvernig á að takast á við umhverfismálin.” Þetta eru undarleg ummæli þegar horft er til þeirrar miklu vinnu og geysilegu áherslu sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt á umhverfismál. VG hefur lagt fram kröfur, hugmyndir, stefnumótun á þessu sviði og skoðað umhverfismálin frá öllum sjónarhornum: náttúrunni í nánd og einnig í stærra samhengi, efnahagslífinu og byggða- og samfélagsmálum. Látum vera að formaður Samfylkingarinnar lýsi ánægju með stefnu síns flokks en slík sending til okkar í Vinstrihreyfingunni grænu framboði þykir mér ekki beinlínis vera í anda þeirrar víðsýni og þess umburðarlyndis sem Ingibjörg Sólrún segist bera mjög fyrir brjósti í umræddu viðtali. Auðvitað vilja allir stjórnarandstöðuþingflokkarnir að þeir ...12. Desember 2006
HVOR ER HÆGRI SINNAÐRI, FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS EÐA SAMFYLKINGAR?
Haffi
11. Desember 2006
SENDIHERRAR OG BÓKASKRIF
Guðmundur Brynjólfs.
10. Desember 2006
BÓNDINN Á BAKKA OG ÁLITSGJAFINN FRÁ HÓLUM Í HJALTADAL
Lífið snýst ekki bara um viðskipti, sagði bóndinn á Bakka, heldur um börn, fjölskyldu og samfélag. Heyrt hef ég í fólki sem tendraðist upp. Einn þeirra var fyrrum skólameistari bændaskólans á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði, þar áður bóndi í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi og enn lengra aftur bóndasonur á Ströndum. Þetta er að sjálfsögðu
Jón BjarnasonÞað er einfaldlega traustvekjandi að hlusta á fólk sem hefur trú á sjálfu sér, íslenskum landbúnaði og að hann eigi erindi inn í framtíðina. Í kvöld segir ...
8. Desember 2006
Baldur Andrésson skrifar: VILTU VINNA MILLJÓN ?
7. Desember 2006
Kristján Hreinsson skrifar: ÍRAK OG PALESTÍNA
7. Desember 2006
Á EKKI AÐ HLUSTA Á LÝÐHEILSUSTÖÐ? FJÖLMIÐLAR KYNNI SÉR MÁLIÐ !
Nú reynir á hvort stjórnvöld vilji hlíta þessari ráðgjöf. Fyrir Alþingi liggur nefnilega frumvarp sem Lýðheilsustöð þykir í einu veigamiklu efni stríða gegn manneldissjónarmiðum. Þetta er frumvarp sem gengur út á lækkun vörugjalda og virðisaukaskatts á matvæli. Flestir hafa fagnað þessu frumvarpi að öðru leyti en því sem lýtur að lækkun virðisaukaskatts á gosdrykki. Það er einmitt þessi þáttur sem Lýðheilsustöð gagnrýnir. Í bréfi sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis barst í dag frá Lýðheilsustöð vegna þessa frumvarps segir meðal annars...5. Desember 2006
ÞAÐ ÞARF AÐ STINGA Á ILLUM ÞJÓÐFÉLAGSKÝLUM
Óskar Helgi Helgason frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum
4. Desember 2006
Af framboði og eftirspurn
Kristján Hreinsson
3. Desember 2006
Fyrst skærin, þá tappatogarinn, nú tannkremstúpan
Í stað þess að leysa mannréttindavanda, óréttlætið í Miðausturlöndum, yfirgang, koma í veg fyrir að heimska og hefndarþorsti vanhæfra stjórnenda á Vesturlöndum ráði ferðinni, er búin til óttatilfinning og síðan falskt öryggi. Hvað ætlum við að láta þetta viðgangast lengi? Rétta fulltrúar Íslands alltaf upp höndina þegar ákveðið er að leita í tannkremstúpunum, gera sjampóið upptækt að ógleymdum naglaklippunum. Mér er minnisstæður fréttamannafundur í Kaupmannahöfn...
2. Desember 2006
FORVAL Í DAG !!!

Í dag, laugardag, fer fram forval hjá Vinstrihreyfingunni Grænu framboði á höfuðborgarsvæðinu. Ég hvet alla félaga í VG á þessu svæði að nýta sér atkvæðisrétt sinn og taka þátt í að velja frambjóðendur fyrir alþingiskosningarnar næsta vor.
Kjörstaðir eru opnir frá 10 til 22.
Seltirningar og Reykvíkingar, aðrir en þeir sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti kjósi í Suðurgötu 3, Reykjavík.
Kópavogsbúar, Garðbæingar, Álftanesbúar og Hafnfirðingar, kjósi á Strandgötu 11 í Hafnarfirði.
Reykvíkingar sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti, Mosfellsbæingar og Kjalnesingar kjósi í Mosfellsbæ.
Vel kann að vera að einhver þátttakandi í forvalinu óski eftir að kjósa á öðrum kjörstað en þeim sem hér er tilgreindur. Sé svo skal...
2. Desember 2006
SKULDIN VIÐ BIRGI
...Íslendingar gleðjast jafnan þegar landinn gerir „ það gott“. Það er út af fyrir sig prýðilegt. En við megum aldrei gleyma því að það skiptir máli hvernig – það er að segja á hvern hátt – við gerum það gott. Þetta snýst ekki um það eitt að maka krókinn. Enda þótt tónn Birgis Ármannssoar sé oft tiltöllega mildur og þýður – þá er það nú ekki alltaf svo. Hann þyrfti að taka sig á; leggja eyrun niður við grasvörðinn og gerast eitt með því landi og því samfélagi sem skóp hann. Þá mun hann skilja að hagsmunir okkar sem þjóðar, sem samfélags, fara ekki endilega saman við hagsmni auðmanna. Fjallræður peningamannsins eru ekki bestu vegvísar í þessu...
2. Desember 2006
FJÁRMUNUM VERÐI RÁÐSTAFAÐ MEÐ SKYNSAMLEGUM HÆTTI
K.I.P.
2. Desember 2006
Kristján Hreinsson skrifar: RÉTT ER EKKI ALLTAF RÉTT...
1. Desember 2006
HJÓLREIÐABRAUTIR Í VEGALÖG ?
Heimir Viðarsson
1. Desember 2006
HVER KEMUR TIL MEÐ AÐ ANNAST HANNES HÓLMSTEIN?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson spyr í Fréttablaðsgrein 10. nóvember síðastliðinn hvort Rousseau sé kominn í stað Marx í stjórnmál samtímans, rómantíkerinn í stað efnishyggjumannsins. Báðir fá þeir Rousseau og Marx slæma einkunn hjá háskólaprófessornum þótt hann virðist kunna betur á bókhaldið en tilfinningarnar og eigi þar af leiðandi auðveldara með að skilja efnishyggjumanninn Marx.
Hannesi Hólmsteini er nokkur vorkunn. Við lifum á tíma græðginnar. Öll andmæli heita öfund, öll gagnrýni heitir að vera á móti! Annnað hvort sem kommúnisti eða sem rómantíker. Þess vegna vísan í Rousseau og Marx. Sá hópur fólks sem vill andæfa lífi í græðgi hefur í dag “rangt fyrir sér”. Þetta er samkvæmt boðendum fagnaðarerindis óheftrar frjálshyggju “röng lífsskoðun”. Getur lífsskoðun nokkurn tímann verið „röng“? Þegar allt kemur til alls snýst málið um hvernig...
1. Desember 2006
UM HALLAREKSTUR Á SJÚKRAHÚSUM

Birtist í Morgunblaðinu 30.12.06.
Það er áhyggjuefni að sjúkrahús landsins skuli rekin með halla. Hvers vegna skyldi það vera áhyggjuefni? Þetta er verðug spurning í ljósi þess hve ágengur hallarekstur sjúkrahúsa er orðinn í þjóðfélagsumræðunni. Auðvitað er það svo að í rekstri sjúkrahúsa er margt sem betur mætti fara, og hef ég ekki sagt mitt síðasta orð í því efni. En hitt er þó staðreynd að hallareksturinn á Landspítala- háskólasjúkrahúsi, svo dæmi sé tekið, er tilkominn vegna þess að Jón Jónsson þurfti að láta gera að viðbeinsbroti og þó ekki síður vegna hins að nýrnadeild spítalans er farin að vinna kraftaverk, veita sífellt fleira fólki þá þjónustu, lækningu og stuðning sem best gerist í heiminum! Er þetta áhyggjuefni? Nei. Þetta er að sjálfsögðu fagnaðarefni. Hitt er áhyggjuefnið að menn skuli láta niðurskurðarpólitíkusana ráða...
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EÐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLÆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIÐLAR SKOÐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












