Beint á leiðarkerfi vefsins

31. Janúar 2006

BAKAÐIR EFTIR SÖMU UPPSKRIFT?

...Ef það er rétt að Björn Ingi hjá Framsókn hér í Reykjavík hafi eytt a.m.k. 10 milljónum í prófkjörið sitt þó hann segi bara 5, þá hljóta einhverjir að hafa látið hann fá miklar fúlgur. Nema auðvitað hann sé auðmaður sjálfur og þá kemur upp spurninginn hvort menn þurfi orðið að vera moldríkir til að komast að í stjórnmálum á Íslandi. Annað finnst mér vera áberandi og það er hvað margir af kandidötunum í hinum ýmsu prófkjörum eru líkar týpur. Þetta er sérstaklega áberandi með nýju karlana hjá Íhaldinu, Framsókn og Samfylkingunni. Þeir eru einhvernveginn allir bakaðir eftir sömu uppskriftinni, svona frekar uppskafningslegir framagosar og miklir auglýsingamenn. Ég á við þessa menn eins og Gísla Martein, Björn Inga, Dag B. Eggertsson og Stefán J. Hafstein. Þetta eru sjálfsagt allt ágætismenn en hvort þeir eru sú tegund sem mest vantar í ...
S Pálsson 

31. Janúar 2006

HRYÐJUVERKAMAÐUR EÐA FRELSISHETJA?

...Tilefni þessara skrifa minna eru Staksteinar Morgun-
blaðsins síðastliðinn sunnudag. Ekki skrifa ég upp á hvert orð pistilsins. En vitiborinn er hann að mínu mati, ber vott um víðsýni höfundar og er ég, þegar á heildina er litið, boðskapnum hjartanlega sammála. Í þeirri afstöðu sem birtist í þessum Staksteinapistli er að finna lykilinn að friðsamlegri sambúð. Með aðferðafræði suður-afríska biskupsins Desmonds Tutu í ofanálag mætti síðan komast upp úr skotgröfunum. Þjóð Tutus hins blakka biskups hafði verið kúguð, pyntuð, rænd og fangelsuð um áratugi af valdhöfum og handbendum þeirra. Þegar svo kúgararnir gáfust upp, þá setti...

30. Janúar 2006

ALÞÝÐUFLOKKS/KOMMI SPYR: HVERS VEGNA FÁUM VIÐ EKKI AÐ HEYRA FRÉTTIR?

...Þetta studdu Samfylking og Frjálslyndir og fengu að heyra orð í eyra frá ykkur á Alþingi í dag. Ekki orð um það í fréttum kvöldsins. Eru fréttamenn RÚV ekki í vinnunni eða eru þeir kannski allir í Samfylkingunni, það er að segja þeir sem ekki eru ráðnir af Heimdalli og Vöku? Hvers vegna fáum við ekki að heyra raunverulegar fréttir í "útvarpi allra landsmanna?"  Ég verð að segja Ögmundur, að alveg er að undra að þú skulir nenna að verja þetta íhaldsútvarp og sjónvarp. Látum það gossa og hættum að borga afnotagjöldin. Ég er blanda af gömlum  Alþýðuflokks/komma. Ég hef fram til þessa stutt Ríkisútvarpið af heilum hug. Sú tíð er liðin – eða er að líða. Þess vegna segi ég – leyfum Þorgerði Katrínu að veita náðarhöggið....

30. Janúar 2006

ÁLVERSFRÚIN BRÁÐLÁT Í STÓRIÐJUFRAMKVÆMDIR

...Nú ættum við hins vegar að bíða þar til niðurstaða kæmi úr viðræðum um stækkun í Straumsvík. Það vildi Sigríður Anna, umhverfisráðherra. Það vildi Ál-Valgerður hins vegar ekki. Hún vildi ekki bíða. Þá varð þessi vísa til innan þings:
Hún er ekki á þeim buxum að bíða,
bráðlát í stóriðjuframkvæmdir núna.
Ögmundi má lengi undan því svíða,
að ekkert hrín á álversfrúna.

Einn innan þings

29. Janúar 2006

SVELT OG SELT

Birtist í Morgunblaðinu 28.01.06.
...Eftir að RÚV hefur verið gert að hlutafélagi mun birtast frelsandi engill. Það gæti þess vegna verið Morgunblaðið og samstarfsaðilar þess, sem vildu mynda mótvægi við Stöð tvö. Boðið yrði upp á einhverja milljarða inn í rekstur RÚV hf, að sjálfsögðu gegn eignaraðild. Hver myndi standa gegn tilboði um myndarlega hlutafjáraukningu í RÚV hf? Hver yrði því andvígur að fá aukið fjármagn til að efla og bæta dagskrána? Myndi útvarpsstjórinn fúlsa við slíku? Eða menntamálaráðherrann? Og hvað með okkur hin, væri þetta ekki fjári góð hugmynd? - að öðru leyti en því náttúrlega, að Ríkisútvarpið væri þá hætt að vera Ríkisútvarp heldur...

29. Janúar 2006

SJÓNVARPIÐ TIL MÓTVÆGIS VIÐ FJÁRMAGNIÐ

Sigurvegarinn í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík kom fram í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Ekkert nema gott um það að segja. Mikilvægt er hins vegar að Sjónvarpið láti eitt yfir alla ganga í þessu efni. Ekki minnist ég þess að Svandís Svavarsdóttir oddvita Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík hafi verið boðið til slíks viðtals í Kastljósinu. Ég nefni þetta ekki einvörðungu af umhyggju fyrir VG heldur einnig af umhyggju fyrir Ríkisútvarpinu. Það er ekki ennþá...
Haffi   

28. Janúar 2006

PRÓFKJÖRSRAUNIR

...Nú eru það framsóknarmenn sem berjast sín í milli. "Hestamenn, kjósið Bergsson", ómar á öldum ljósvakans kvölds og morgna og samsvarandi má heyra frá öðrum kandídötum: Þeir sem vilja umferðaröryggi, fylkið ykkur um Önnu Kristins. Og síðan er það Björn Ingi, sem hvarvetna blasir við, hvort sem er á auglýsingasíðum eða netmiðlum. Sá maður virðist hafa peningavaldið á bak við sig. Nýlega var hann sakaður um að gefa unglingum bjór og áfengi á kosningaskrifstofu sinni. Össur Skarphéðinsson segir á heimasíðu að þarna sé á ferðinni ómerkileg árás á Björn Inga og Hrafn Jökulsson tekur undir með Össuri í hvassyrtri blaðagrein. Ég virði það við þá félaga Össur og Hrafn að...

28. Janúar 2006

FRÁBÆR JÓN BJARANSON

Aldrei þessu vant fylgdist ég með sjónvarpsútsendingu frá Alþingi á föstudagskvöld og fram í nóttina. Þið í VG stóðuð eins og fyrri daginn ein vaktina í umræðunni um umhverfismálin. Dapurlegt var að sjá Samfylkinguna og Frjálslynda heltast úr lestinni og meira að segja greiða atkvæði með ríkisstjórninni um að flýta málinu! Hvílíkur vesaldómur. Ekki veit ég hve lengi Jón Bjarnason talaði en án efa flutti hann eina lengstu ræðu þingsögunnar þetta kvöld. Það undarlega var þó að mér fannst ...
Sunna Sara

27. Janúar 2006

MÆTUM Á MÁLVERKAUPPBOÐIÐ

Reykvíkingar athugið! Í kvöld milli kl. 20-22 verður efnt til málverkauppboðs í Egilshöll til stuðnings framboði Björns Inga Hrafnssonar. Boðin verða upp tíu ómáluð verk eftir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Sérstakir boðsgestir verða fulltrúar Landsbankans og KB banka. Hvað gera þeir góðu gestir í kvöld? Borga þeir í sömu mynt og þegar ríkisstjórnin “seldi” þeim bankana, eða borga þeir í evrum? Er ekki kominn tími til að Landsbankamenn efli listaverkasafnið sem ríkisstjórnin gleymdi að gera ráð fyrir við bankasöluna? Og hvað gera KB bræður, þeir ...
Stuðningsmannanefndin

26. Janúar 2006

TRYGGJUM BIRNI INGA ÖRUGGT SÆTI

Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir hefi ég ekkert látið til mín taka hér í lesendahorninu á liðnum mánuðum. Er þar almennu heilsuleysi, nefnilega magaverkjum, hlustarverk í hægra eyra og eins liðverkjum í griplimum, um að kenna - og hefir allt þetta vesen hamlað mér frá skriftum og öðru verklegu stússi. En nú er að duga eða drepast fyrir minn gamla vin og fermingarbróður...
Þjóðólfur

26. Janúar 2006

DAGUR ÁN SAMFYLKINGARINNAR Á ALÞINGI

Á Alþingi í dag var til umræðu frumvarp ríkisstjórnarinnar um rannsóknir á auðlindum í jörðu. Þetta er hitamál sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur beitt sér mjög gegn en iðnaðarráðherra hefur að sama skapi hamast fyrir samþykkt þess. Ágreiningurinn snýst um eftirfarandi grundvallaratriði: Ráðherrann vill fá heimild til að úthluta rannsóknarleyfum til virkjunarþyrstra orkufyrirtækja en VG vill á hinn bóginn að nú verði stopp sett á frekari áform í þágu erlendra álfyrirtækja sem bíða í röðum eftir að fá að versla við lítilþægustu ríkisstjórn í Evrópu ... Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er því vanur að standa náttúruvaktina einn innan veggja Alþingis – það gerðum við í Kárahnjúkadeilunni og í deilunni um Þjórsárver - og verður svo í þessu máli. Dagurinn var eins og flestir dagar að mörgu leyti ágætur – en hann varð án Samfylkingarinnar þegar á hann leið og nú ...

25. Janúar 2006

MUNIÐ EFTIR PRÓFKOSNINGUNNI !

Ég vil minna alla Reykvíkinga á prófkjör okkar framsóknarmanna vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Prófkjörið sjálft fer fram í Skautahöllinni í Laugardal núna á laugardaginn, 28. janúar...Aðgangur á báða staðina er ókeypis, veitingar sömuleiðis, varningur ýmis og skemmtanir. Það verður heitt á könnunni og freyðandi bjór á krananum. Þá verður dreift sérdeilis fallegum barmmerkjum og níðsterkum verjum, sérmerktum flokknum, og er þá aðeins fátt eitt nefnt... 
Jón Ásbjörnsson,
bóndi, Rauðará

25. Janúar 2006

PYNTINGAR: ÞÖGN ER SAMA OG SAMÞYKKI

...Ef ekki ætti í hlut voldugasta ríki heimsins hefði fyrir löngu komið til tals að slíta stjórnmála-
sambandi við það! Ekkert væri fjær íslensku ríkisstjórninni. Gagnvart Bandaríkjastjórn kann hún best við sig á hnjánum. Þegar ríkisstjórnin var knúin til þess að "mótmæla"  framferði Bandaríkjamanna vorið 2004 var það gert svo mildilega að ekki nokkur maður tók eftir því. Þetta hafa síðan verið kölluð mótmæli í kyrrþey. Í stað þess að afneita staðreyndum um framferði Bandaríkjamanna á ríkisstjórn Íslands nú að hafa manndóm í sér til að...

24. Janúar 2006

BÓKUN ÁLFHEIÐAR

Getur verið að fjölmiðlar hafi ekki almennilega kveikt á perunni, nefnilega að Álfheiður Ingadóttir, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í stjórn Landsvirkjunar, greiddi ein atkvæði gegn tillögu um að hafnar skyldu viðræður við Alcan um orkusölu til stækkunar álversins í Straumsvík í 460 þúsund tonna framleiðslu á ári? Sannast sagna kann ég ekki aðra skýringu á sinnuleysi þeirra um afstöðu fulltrúa VG í Landsvirkjun. Ef til vill horfir þetta til bóta því í dag sendi þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs frá sér ályktun um "stækkunarviðræðurnar" ásamt bókun Álfheiðar Ingadóttur, en bókun hennar er svohljóðandi...

21. Janúar 2006

EIGNARHALD, RITSTJÓRNARSTEFNA OG RÍKISÚTVARPIÐ

Birtist í Morgunblaðinu 20.01.06.
...Í ofanálag geirneglir stjórnarfrumvarpið pólitískt meirihlutavald yfir stofnuninni – endurspeglun á stjórnarmeirihlutann hverju sinni! Það er ekki að undra að þeim fjölgi sem leggjast gegn frumvarpi menntamálaráðherra um hlutafélagavæðingu RÚV. Þeir sem leggjast gegn því er sama fólkið og hefur lesið frumvarpið og jafnframt kynnt sér aðra valkosti sem bjóðast til að bæta rekstrarskilyrði Ríkisútvarpsins. Það segir...

20. Janúar 2006

MÁLEFNADEIGLA VG Á LAUGARDAG - KOSNINGABARÁTTAN BYRJUÐ !

Baráttan byrjar með mismunandi hætti hjá flokkunum í Reykjavík. VG valdi sína frambjóðendur í forvali þegar í haust og var gengið frá listanum í heild nú í byrjun mánaðarins. Nú stendur hins vegar yfir mikil auglýsingaveisla áróðursfyrirtækja og fjölmiðla þar sem "miðjuflokkarnir", Framsókn og Samfylking velja fólk til að leiða sína lista. Þau sem greiðastan aðgang hafa að fjármagni fá mesta kynningu meðan almennir flokksmenn eiga litla sem enga möguleika. VG stendur ekki í slíku heldur boðar til opinnar ráðstefnu um borgarmál...

20. Janúar 2006

MANNI BLÖSKRAR!

...Þá hef ég áhyggjur af því að venjulegt vinnandi fólk geti ekki boðið sig fram til starfa í sveitarstjórnum. Ég heyrði um konu í Kópavogi sem ætlar að bjóða sig fram í 4. sæti í sínum flokki en er búin að láta prenta bækling og opna skrifstofu. Er ekki hægt að stoppa þetta eða semja um einhver skynsamleg takmörk?
Fjóla

19. Janúar 2006

MISHEPPNUÐ ÍKVEIKJA


Einar K. Guðfinnsson,
alþingismaður og sjávarútvegsráðherra, minnir svolítið á pólitískan brennuvarg þessa dagana. Hann skrifar pistil á heimasíðu sína í dag þar sem hann reynir allt hvað hann getur að spilla því ágæta samstarfi sem er á milli stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi. Hann reynir að finna dæmi þar sem flokkarnir veitist hver að öðrum og er harla hróðugur þegar honum finnst það takast. Hann gleðst eins og brennuvargur við eldsvoða. Staðreyndin er hins vegar sú að á sama tíma og logar stafna á milli á ríkisstjórnarskútunni fer fram gott og málefnalegt samstarf á milli stjórnarandstöðuflokkanna, VG, Frjálslyndra og Samfylkingar. Margt eiga þessir flokkar sameiginlegt og við höfum það jafnan í huga. Að sjálfsögðu horfum við af raunsæi einnig til þess að málefnalegur ágreiningur er á milli þeirra á ýmsum sviðum...

18. Janúar 2006

TELUR LANDSVIRKJUN LÝÐRÆÐIÐ VERA TIL TRAFALA?

...Friðrik Sophusson gerði því skóna í útvarpsviðtalinu í morgun að þetta skýrði viðsnúning Samfylkingarinnar varðandi Norðlingaölduveitu. Í útvarpsviðtalinu sagði hann að ástæða þess að meirihlutinn í Reykjavík snérist nú gegn þessari framkvæmd sé ótvíræður vilji borgarbúa í þessum efnum. Orðrétt sagði forstjóri Landsvirkjunar: "...þessi niðurstaða borgarinnar og þá sérstaklega meirihlutans sýnir að það eru kosningar í nánd og að það eru að koma prófkjör..."  Ef þetta er rétt, þá bið ég um ...Reyndar er sérkennilegt að fylgjast með tungutaki þeirra Landsvirkjunarmanna þessa dagana. Nú er allri umræðu um virkjanir og orkumál snúið upp í þröngt fyrirtækjatal. Það eru sagðir "óeðlilegir hagsmunaárekstarar" að sami aðili, þ.e. Reykjavíkurborg...

17. Janúar 2006

DV GERIST MÁLSVARI HARÐLÍNU HÆGRI STEFNU

Það á ekki af DV að ganga. Tveir ritstjórar segja af sér vegna mótmæla í landinu út af stefnu þeirra við ritstjórn blaðsins. Nýir ritstjórar eru ráðnir. Og hvað gerist? Nýr skandall! Annar hinna nýráðnu ritstjóra, Björgvin Guðmundsson, reynist vera svo hægri sinnaður að áskrifendur blaðsins spyrja sjálfa sig hvort þeir séu staddir á málfundi hjá Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna, þegar þeir lesa ritstjórnarpistla hans. Leiðarinn í dag ber yfirskriftina...

14. Janúar 2006

FRÉTTABLAÐINU FLETT

Á forsíðu fimmtudagsútgáfu Fréttablaðsins var okkur sagt frá því að eignir Símans hafi þrefaldast eftir söluna frá í sumar „í höndum nýrra eigenda.“ Við vitum að sjálfsögðu sem er, að fyrirtækið hefur ekki tekið nein slík stökk fram á við. Það er einvörðungu braskgildið sem hefur vaxið. Okkur er sagt frá nýjum skuldum fyrirtækisins og að skuldaaukningin nemi tugmilljörðum. En að sama skapi hafi verið braskað af miklum krafti og sé niðurstaðan sem sé þreföldun eigna.

12. Janúar 2006

STAKSTEINAR OG PÓLITÍSKAR RANNSÓKNAMIÐSTÖÐVAR

Morgunblaðið gerir að umfjöllunarefni skrif mín hér á síðunni um svokallaða Rannsóknamiðstöð um samfélags- og efnahagsmál,  RSE.  Ég vakti athygli á þeim aðilum, sem að miðstöðinni standa en þeir eru flestir, ef ekki allir, af frjálshyggjuvæng stjórnmálanna, enda er markmið Rannsóknamiðstöðvarinnar að: „efla skilning og mikilvægi frjálsra viðskipta og eignaréttinda…“  Á vegum þessarar stofnunar var nýlega birt skýrsla um Ísland og alþjóðaviðskipti og vakti ég athygli á því að þar hefðu höfundar lýst því blákalt yfir að skýrslan væri skrifuð í því augnamiði að „tíunda kosti alþjóðaviðskipta…“  Þetta sagði ég að virtist ekki vera sérlega fræðileg nálgun.

11. Janúar 2006

FJÁRFESTINGARMÖGULEIKAR FRAMUNDAN Í VATNI SEGJA FRAMSÓKNARFJÁRFESTAR


Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Olíufélagsins kom fram í sjónvarpsfréttum í gær til að leggja áherslu á siðferði í viðskiptum. Til stendur að eigendur Olíufélagsins, en þar er hann sjálfur fyrirferðarmestur, selji félagið en slíkt megi alls ekki gerast, segir Ólafur, í "reykmettuðum bakherbergjum". Nú veit ég ekki hvort Ólafur Ólafsson er reykingamaður en hitt veit ég að sjálfur hefur hann notið góðs af baktjaldamakki Framsóknarflokksins á undanförum árum. Sjálfur er hann þar í innsta hring og naut gjafmildi þeirra Halldórs, flokksformanns og Valgerðar, viðskiptaráðherra þegar þau gáfu Búnaðarbankann.- eða til að vera nákvæmari, "seldu" hann á gjafprís. Í kjölfarið hafa njótendur þessa pólitíska örlætis makað krókinn ótæpilega. Það er varla nema fyrir innvígða að fylgjast með ferli fjármálabrasksins en eftirfarandi ...

11. Janúar 2006

ERU 6-19 KRÓNUR EINHVER OFRAUSN FYRIR HANNES SMÁRASON?

Mikið fjaðrafok hefur verið í samfélaginu allt frá því út spurðist um tvo starfslokasamninga og laun forstjóra FL-Group. Helstu strigakjaftar stjórnarandstöðunnar hafa haft uppi hávær öskur um sjúklega græðgi, græðgis- og gróðapungavæðingu, almenningur hefur tjúttað með, menningarvitar hafa tjáð sig um meint gírugheit íslenskra athafnamanna og þóst geta kennt þeim lífsins gildi og gæði með alls kyns ráðum; til að mynda að betra sé að éta eina appelsínu í einu í stað þess að reyna að torga heilu tonni í einum bita. Málflutningurinn allur hefur einkennst af öfund, útúrsnúningum, að ekki sé talað um þekkingarleysi, og svo þung hefur undiraldan verið að jafnvel sumir ráðamenn landsins hafa neyðst til að taka ...
Jón Ólafsson frá Bisnesi

10. Janúar 2006

NÝ “RANNSÓKNARSTÖД VILL AUKA SKILNING Á “EIGNARÉTTINDUM”

Að undanförnu hefur talsvert verið fjallað um nýútkomna skýrslu eftir hagfræðingana Tryggva Þór Herbertsson, Halldór Benjamín Þorbergsson og Rósu Björk Sveinsdóttur, sem ber heitið Ísland og alþjóðaviðskipti. Þar lýsa skýrsluhöfundar því blákalt yfir að “ritgerðin” “skrifuð til að tíunda kosti alþjóðaviðskipta...” Þetta getur varla flokkast sem sannfærandi fræðileg nálgun á viðfangsefnið sem einkum og sérílagi tekur til verslunar á sviði landbúnaðarafurða. Auðvitað er það kostur að menn tali tæpitungulaust um hlutina ef þeir á annað borð vilja gerast pólitískir. Og ekki verða skýrsluhöfundar ásakaðir fyrir að reyna að villa á sér heimildir. Á afdráttarlausari hátt verður varla lýst yfir aðdáun á hægrihyggju en gert er í þessum formálsorðum skýrslunnar: „Undanfarinn áratug hefur Ísland siglt hraðbyri í frjálsræðisátt. Fjármagnsflutningar hafa verið gefnir frjálsir, skikki komið á ríkisfjármálin og skuldir greiddar, ríkisfyrirtæki einkavædd, skattar á fyrirtæki lækkaðir og rammi hagstjórnar er orðinn eins og best verður á kosið. Á minnsta kosti einu sviði hefði þó mátt ganga hraðar fram – á vettvangi alþjóðaviðskipta.“

10. Janúar 2006

UM EFTIRLAUNAFORRÉTTINDI ÞINGMANNA OG RÁÐHERRA

...Ég vildi benda þér á frétt í Fréttablaðinu 5. janúar og gera athugasemd við hana: Í fréttinni segir: "Eftirlaunafrumvarpið varð umdeilt og þá sérstaklega sú staðreynd að ráðherrar og þingmenn gætu hafið töku eftirlauna þó að þeir væru í fullu starfi hjá hinu opinbera." Þetta er röng fullyrðing. Andstaðan við eftirlaunafrumvarpið kom þessari svívirðu ekkert við, enda var hún ekki hluti frumvarpsins heldur laga sem hefði þurft að breyta um leið og hin nýju forréttindi þingmanna voru lögfest, 15. desember 2003. Það "gleymdist" hins vegar í flýtinum og leynimakkinu og varð ekki opinbert fyrr en í ársbyrjun 2005. Megn andstaða við eftirlaunafrumvarpið var vakin vegna þess að...
Hjörtur Hjartarson

9. Janúar 2006

ALÞJÓÐASAMTÖK LAUNAFÓLKS VILJA ALÞJÓÐAVÆÐINGU Á RÉTTLÁTUM FORSENDUM

 
Í Fréttablaðinu í gær furða menn sig á áherslum BSRB varðandi Doha-viðræðurnar svokölluðu, sem fram fara á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO...Út á hvað ganga þessar ályktanir samtaka launafólks? Tvennt er gagnrýnt. Í fyrsta lagi sú leynd sem hvílt hefur yfir samningaviðræðunum og ólýðræðsileg vinnubrögð...Í öðru lagi eru samningsforsendurnar gagnrýndar... Fréttablaðið gerir að sínum orð Ýmis Arnar Finnbogasonar, eins af pistlahöfundum deiglunnar.com, sem er vefrit frjálshyggjumanna þar sem hann beinir gagnrýni ...Ég tók reyndar þátt í mjög skemmtilegri umræðu um þetta efni með ágætum deiglupenna, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, í síðustu viku á fundi sem Samband ungra sjálfstæðismanna, SUS, boðaði til...  

9. Janúar 2006

ÁRAMÓTAVEISLA

...Til þess að fagna þessu og áramótunum bauð ég ýmsum merkismönnum með hjartað vinstrameginn til veislu.. Á boðstólum var hangikjét, uppstúfur, öl og brennivín. Rífandi stemming var í samkvæminu, enda voru það ekki ómerkari menn en Bítlarnir og Rollingarnir sem léku og sungu fyrir dansi ásamt fjölda annara öflugra listamanna. Græjurnar hans Svenna á Grund klikkuðu ekki og eftir veisluna svaf hver hjá öðrum, án eftirmála. Okkur hér á Snotru fannst lítið til um þá frétt að Tom Jones hefði sungið nokkur lög í veislu íslenskra auðjörfa í höll í London, jafnvel þótt ...
Runki frá Snotru

8. Janúar 2006

SÓKNIN INN Á MIÐJUNA OG ÝMIS KONAR ÞRÁHYGGJA

...þáttastjórnandinn Egill sá sér leik á borði til að magna farsann. Pistlahöfundurinn á Blaðinu, sem að eigin sögn hrífst mikið af Staksteinum fyrir stíl og andagift, Kolbrún þessi, virðist haldin undarlegri þráhyggju, hana dreymir að fyrrum vistmaður á dvalarheimili aldraðra stjórnmálamanna, utanríkisþjónustunni, gangi aftur í endurnýjaða pólitíska lífdaga. Þessi sérkennilegu skrif Staksteina virðast hafa sett formann Samfylkingarinnar jafnvel enn meira út af laginu, þar sem hún er byrjuð að slá úr og í í kvótaumræðunni. Þetta kemur m.a. fram í því að hún talar svo óskýrt að hún hefur ekki við að leiðrétta sjálfa sig. Er þetta það sem Mbl á við með því að...
Sigurður

7. Janúar 2006

ERTU AÐ VERÐA NÁTTÚRULAUS?

...Ég lái ekki þáttastjórnanda í Kastljósi fyrir að þakka ráðherra fyrir komuna og reyna að ljúka þættinum, eða var það ef til vill eftir yfirlýsingar hennar um hve æskilegir vinnustaðir álver væru fyrir æsku landsins í framtíðnni, sem þáttastjórnandinn ákvað að slíta samtalinu? Synd að Valgerður Sverrisdóttir, náttúruverndarsinninn að eigin sögn, skyldi ekki vera á tónleikunum í kvöld. Ég held að það væri æskilegt að ráðherrar tækju til umfjöllunar á að minnsta kosti einum ríkisstjórnarfundi spurninguna um hvort verið gæti að ríkisstjórnin sé á góðri leið með að verða náttúrulaus. Sennilega væri þó markvissara að spurt yrði hvort ríkisstjórnin væri að...

6. Janúar 2006

RÍKISSTJÓRNIN OG KJARAMISRÉTTIÐ

Valgerður Sverrisdóttir kom fram á Morgunvakt RÚV í morgun til að fjalla um launagjána sem myndast hefur í íslensku samfélagi. Í viðtalinu kom margt athyglisvert fram og sumt vægast sagt furðulegt. Ráðherrann reynir að þvo hendur ríkisstjórnarinnar af öllu því sem er að gerast. Valgerður Sverrisdóttir segir að stjórnvöld geti ekki haft áhrif á launakjörin í landinu, einvörðungu sett almenn lagaákvæði sem lúta að kjaraumhverfinu. Þetta er að vísu ekki rétt því ríkið semur við starfsmenn sína og eins og fram hefur komið í opinberri umræðu hafa samningar þeirra sem hærri hafa launin hækkað meira en hinna sem eru á lægri launum. Ummæli Valgerðar Sverrisdóttur gefa líka tilefni til að skoða þau lagaákvæði sem ráðherrann vísar í og lúta að kjaramálum. Þegar dæmið er gert upp lítur það svona út...

5. Janúar 2006

Baldur Andrésson skrifar: ÁRAMÓTAÍRAK

Kaumpánarinir Halldór og Davíð geta senn fagnað þriggja ára stríðshelvíti í Írak-þeirrI atlögu gegn þróunarríki sem þeir staðfastir studdu fyrir hönd okkar Íslendinga. Enn situr Halldór Ásgrímsson í ráðherrasæti en hefur þó viðurkennt að hluta til villur síns vegar varðandi Írak. Þrátt fyrir andmæli og viðvaranir víða að, átti Halldór á sínum tíma ríkan þátt í að móta opinbera íslenska stjórnarstefnu á grunni upploginna CIA gagna, árásargjarnrar græðgisstefnu bandarísku haukanna. Hann axlaði þá mikla ábyrgð, braut trúnað við þjóð sína og gerði Ísland að bakhjarli stríðsglæfra. Halldór vill síst líta um öxl nú en hvetur okkur landa sína til að horfa til birtunnar, sem við blasir í Írak að því er hann telur.  Allra síst er hann líklegur til að viðurkenna siðferðishrun sitt og þeirra félaga sinna, sem hann enn bindur trúss við, þá sem færðu Írökum eld og brennistein. Fátt fæst enn upplýst um...

4. Janúar 2006

ÁRAMÓTAHUGLEIÐINGAR HALLDÓRS OG HELGU

Í byrjun vikunnar birtut í Morgunblaðinu ýmsar áramótahugleiðingar, þar á meðal þeirra Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, og Helgu Hansdóttur yfirlæknis í almennum öldrunarlækningum LSH, Landakoti. Bæði viku þau að stöðu aldraðra...Allir þeir sem muna feril þeirra nefnda sem ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa sett á laggirnar um kjör aldraðra allar götur frá því þessir flokkar hófu samstarf vorið 1995 hljóta að hugsa sitt...Helga Hansdóttir skrifar mjög umhugsunarverða grein undir fyrirsögninni: Áramótahugleiðing um þjónustu heilbrigðiskerfisins við aldraða. Hún segir að...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Allar greinar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta