31. Desember 2006
...............Háeffun matvælarannsókna í Matís hefur sett þann málflokk allan í uppnám og starfsfólkið upplifir sig eins og einnota vöru úr búð með skilamerki á. Væri ekki ráð fyrir Ríkisútvarpið að gera þessu hvoru tveggja efnislega skil í stað þess að drepa raunveruleikanum á dreif með umfjöllun um " ekki kjaradeilu" einstakra starfshópa og yfirborðskenndum viðtölum við talsmenn ríkisstjórnarflokkanna. Nái vilji ríkisstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks fram að ganga er það starfsfólk Ríkisútvarpsins sem verður næst rekið út á „blóðvöll“ Háeffunar. Er ekki kominn tími til að ræða einkavæðinguna í því pólitíska samhengi sem hún er sprottin upp úr. Einkavæðing almannaþjónustunnar er pólitísk í eðli sínu. Hvers vegna skyldu fjölmiðlar, þar með talið Ríkisútvarpið, hræðast að ræða hana í því samhengi...?
31. Desember 2006
...Ögmundur, ég vona að þú finnir þessum íslenska fána góðan stað, þar sem ber mikið á honum, og takir hann jafnvel á ræðufundi og samkomur, til að minna fólk á að þetta er fáninn sem núverandi stjórnvöld Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins höfnuðu og fundu engan stað fyrir, hvorki á byggðu bóli, né í hjörtum sínum!
Ég ber mikla virðingu fyrir Pétri Kristjánssyni og hafi hann þökk og heiður fyrir framtak sitt. Ég vona að þessi heiðursgjöf hans verði hvatning til þess að íslenskir fánar verði í hávegum hafðir miklu meir en áður hefur verið! Hvarvetna sem ...
Helgi
30. Desember 2006
Birtist í Fréttablaðinu 29.12.06.
...Enda þótt óskiljanleg kergja sé í flestum stjórnum hlutafélagavæddra fyrirtækja gagnvart starfsmönnum og stéttarfélögum virðist stjórn Matís ohf ætla að slá flest fyrri met. Félagið neitar nefnilega að gera rammasamkomulag sem vísar inn í framtíðina við stéttarfélög hins nýja fyrirtækis. Friðrik Friðriksson, formaður stjórnar Matís ohf, lýsti því yfir á fundi með starfsmönnum skömmu fyrir hátíðar að ekki stæði til að leggjast yfir kjarasamningsgerð með stéttarfélögum. Þess í stað hafa starfsmenn verið króaðir af einn og einn þar sem þeim hefur verið boðið að skrifa undir ráðningarsamninga sem forsvarsmenn stéttarfélaganna segja vera afar ...
30. Desember 2006
...Þessi flokkur, sem í eina tíð var flokkur samvinnu og sátta, er í dag flokkur spillingar og samtryggingar, flokkur helmingaskipta og valdabrölts í skjóli bitlinga og klíkustarfsemi af ýmsum toga. Enda er það engin tilviljun að ein...
Með þá von í brjósti að ég geti staðið við haug Framsóknarflokksins eftir kosningarnar í vor birti ég hér síðustu vísu bókarinnar:
Framsókn að endingu farið nú hefur
til feðranna sinna á nábleiku skýi,
banamein flokksins var blekkingavefur,
bitlingasýki og inngróin lygi.
30. Desember 2006

Ég varð í gær þess mikla heiðurs aðnjótandi að taka við íslenska fánanum að gjöf frá Pétri Kristjánssyni, sem Reykvíkingum og landsmönnum mörgum er að góðu kunnur fyrir óeigingjörn störf um áratugaskeið. Varla hefur sá atburður átt sér stað í höfuðborginni þar sem þurft hefur að setja upp öflugan eða flókinn hljóðbúnað að Pétur hafi ekki stýrt þar málum. Pétur Kristjánsson er auk þess ötull félagsmálamaður, vakinn og sofinn í starfi fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og þar með BSRB.
Við afhendingu fánans lagði Pétur áherslu á nauðsyn þess að hafa íslenska fánann í heiðri og skyldu Vinstri græn minnast þess í komandi kosningabaráttu og í kjölfarið, hugsanlega við stjórnvöl landsins, að þeim vegnaði vel sem...
30. Desember 2006
... Ætti að mati Vinstri Grænna að loka öllum álverum í heiminum...?
Jón Þórarinsson
30. Desember 2006
Nú er lag til að fagna. Ég og aðrir umhverfisverndarsinnar bíðum eftir því að þú fagnir þeirri ákvörðun Hitaveitu Suðurnesja að falla frá umsókn um rannsóknarleyfi í Brennisteinsfjöllum. Það voru kratarnir í Hafnarfirði sem áttu stóran þátt í þessari ákvörðun HS. Bæjarstjórnin fagnaði ákvörðuninni og hvatti Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun til að falla einnig frá umsókn um rannsóknarleyfi. Þetta eru sömu kratarnir og ætla að láta bæjarbúa ákveða með atkvæðagreiðslu hvort af stækkun álversins í Straumsvík verði. Ég veit að VG hefur reynt að gera þá atkvæðagreiðslu torkennilega ...
Kveðja Sáfi
29. Desember 2006
Ég er einn þeirra sem staðið hefur frammi fyrir því að ákveða hvort ég taki við starfi hjá Matís ohf, hinu hlutafélagavædda fyrirtæki, sem áður samanstóð af Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknum á Keldnaholti og rannsóknarstofu Umhverfisstofnunar. Ég skal játa að ég var í hópi þeirra sem lét mig litlu varða hvort stofnanir væru færðar í búning hlutafélags eður ei. Eftir að kynnast atgangi nýrra stjórnenda með persónubundna ráðningarsamninga upp á vasann, nánast í einelti gagnvart einstökum starfsmönnum og andúð þeirra á stéttarfélögum, eru skoðanir mínar í þeim efnum gerbreyttar. Ég ásaka sjálfan mig fyrir...
Hlutafélagavæddur ríkisstarfsmaður
29. Desember 2006

Vinstrihreyfingin grænt framboð mun nú fyrir áramótin skýra frá tillögum kjörnefndar til uppstillingar á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Efnt var til forvals í byrjun desember og á grundvelli þess er síðan raðað upp á lista á kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavík suður, Reykjavík norður og í Suðvestur kjördæmi, Kraganum sem svo er oft nefndur...Breytt kjördæmaskipan kallar á nýja hugsun og vísar það skref sem Vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu hafa stigið með því að líta á höfuðborgarsvæðið heildstætt inn í nýja framtíð...
28. Desember 2006
...Það var ánægjuleg samstaða í borgarráði nú rétt fyrir jólin um spilakassana í Mjódd. Borgin hefur áður reynt að nýta skipulagsvald til að banna spilakassa (á Skólavörðustíg) en var gerð afturreka með þá ákvörðun af dómstólum. Nú er spurning hvort unnt sé að tryggja lagagrundvöll fyrir sveitarfélög til að koma í veg fyrir spilakassastarfsemi þar sem þau vilja ekki heimila hana...
Árni Þór Sigurðssson
28. Desember 2006
Ögmundur við höfum áður rætt um félaga okkar og vini sem spilafíknin hefur tekið af öll völd. Einstaklingar hafa misst aleigu sína. Yfirleitt er þetta vel gefið fólk, fíknin fer ekki í manngreinarálit fremur en alkahólsimi. Dapurlegast er þó að það eru mörg þjóðþrifafélög sem “njóta” góðs af starfseminni. Ég er sammála því sem þú hefur stundum sagt Ögmundur, að fíklarnir eru beggja vegna borðsins: Sá sem spilar og hinn sem tekur gróðann. Báðir eru háðir spilakössunum. Enda viðbrögðin eftir þessu. Það er ekki aðeins spilafíkillinn, sem lætur peningana af hendi rakna sem bregst við í bræði þegar honum er meinaður aðgangur að spilavítisvél. Það er ekki síður hinar virðulegu stofnanir, Háskóli Íslands og Landsbjörg, sem bregðast ókvæða við gagnrýnni umræðu...
28. Desember 2006

Náttúruverndarsamtökin
Sól í Straumi, sem beita sér
gegn stækkun álvers Alcans í Straumsvík í Hafnarfirði og almennt
í þágu náttúruverndar og heilbrigðrar skynsemi, brugðust við álgjöf Alcans með því að færa fulltrúum álrisans 10 röksemdir gegn stækkun álversins. Mútugjöf Alcans var þannig mætt á málefnalegan hátt. Gjöf Alcans er augljóslega ætlað að kaupa álverinu vinsældir í aðdraganda kosningar um deiliskipulag fyrir stækkun álversins. Gjöfin er ætluð öllum kjósendum í Hafnarfirði! Hún er álinnpakkaður hljóm- og dvd- diskur vinsæls hljómlistarmanns og hefur ekkert með ágæti eða ókosti stóriðjustefnunnar að gera. Þess vegna er réttmætt að tala um mútugjöf. Það er þekkt bragð hjá aðilum með vafasaman málstað að reyna að vinna honum fylgi með því að beina umræðunni frá málefninu og helst að tengja málstaðinn einhverju allt öðru, þess vegna hugljúfum tónum vinsæls listamanns.
Þegar félagar í Sól í Straumi skiluðu...
27. Desember 2006
Ég verð að segja eins og er að tónleikarnir á aðfangadagskvöld voru frábærir. Óskar Einarsson er alveg á heimsmælikvarða og svo auðvitað Edgar Smári og María Másdóttir. Þarna voru líka dívur úr Gospelheimum sem ég þekki ekki nafnið á og sungu eins og englar...Mér finnst leiðinlegt hvað kennimennirnir í frjálsu söfnuðunum eru langt að baki söngfólkinu í framsetningu á Orðinu. Þakkir til sjónvarpsins fyrir að flytja þennan þátt inn í stofu til okkar. Svo vil ég þakka þér Ögmundur fyrir að standa vörð um rétt okkar þessa venjulega manns og óska þér gleðilegs árs og velfarnaðar á komandi ári.
Bjarni
27. Desember 2006

Ég sagði hér á síðunni að mér fyndist að prestar landsins ættu að bregða sér til Betlehem
samtímans í jólapredikunum sínum, ekki láta sér nægja að bregða upp mynd af atburðum þaðan fyrir tvö þúsund árum. Sú kúgun sem fólk á þar við að stríða núna hlyti að verða mönnum umfjöllunarefni. Mér var bent á að þetta hefði einmitt verið viðfangsefni í jólamessum prófastsins á Kjalarnesi, séra
Gunnars Kristjánssonar á Reynivöllum í Kjós. Oft hef ég vitnað í frábærar predikanir séra Gunnars og geri nú enn. Í upphafi predikunar hans í jólamessu á Reynivöllum komst hann svo að orði:
“Ég er að fara til Betlehem og ætla að vera þar yfir jólin” sagði kunningi minn þegar ég hitti hann fyrir nokkrum dögum. “Til Betlehem...” Upp í hugann kom myndin af Maríu og Jósef á leið yfir fjöllin til litla þorpsins sem er táknmynd í hugum kristinna manna. Þau voru einnig á leið til Betlehem. Við vorum í Litlu kaffistofunni vestan til á Hellisheiði. Barnabörnin, sem voru með afa á leið í Kjósina, hættu skyndilega að drekka skyrdrykkinn sinn þegar kunningi minn, sem er læknir, sagði þessa setningu: “Ég er að fara til Betlehem.” Svo bætti hann við að hann ...
25. Desember 2006
Í Betlehem er barn oss fætt, er sungið um jólin þegar fólk minnist fæðingar Krists. Okkur er innrætt að jólin eigi að vera tilefni til göfugrar hugsunar. Prestarnir predika um mannkærleikann og boðskapur réttlætis og friðar er í hávegum hafður. Allt of mörgum þykir það hins vegar vera þægilegra að hugsa um tvö þúsund ára réttlæti eða ranglæti, eftir atvikum, en veruleika samtímans sem kallar á afstöðu okkar hér og nú. Í dag heyrðum við í fréttum Svein Rúnar Hauksson, lækni og formann félagsins Ísland-Palestína, tala frá Betlehem. Hann hafði komist til borgarinnar í fylgd biskups frá Jerúsalem, að því er mér skildist (eða var það biskupinn af Kantaraborg sem einnig var í Jerúsalem í dag?). Borgin er nánast eins og lokað fangelsi, umlukt múrum og umsetin ísraelsku hernámsliði. Þetta ætti að vera umfjöllunarefni úr hverjum predikunarstól á jólum meðan þetta kúgunarástand varir. Orð Sveins Rúnars voru ...
24. Desember 2006
Birtist í Morgunblaðinu 23.12.06.
...Móðgunargjörnum mönnum í opinberri þjónustu þætti þetta eflaust tilefni til þess að stinga niður penna og fara fram á afsökunarbeiðni. Það er þó fráleitt að persónugera málin með þessum hætti á hvorn vænginn sem er, hinn opinbera eða hinn einkarekna. Á báðum stöðum vinnur örugglega ágætt fólk, upp til hópa. Spurningin snýst hins vegar um fyrirkomulag, þau lög og þær reglur sem fólk starfar samkvæmt, þá menntun sem tilskilin er til að gegna tilteknum störfum og þau markmið sem stofnanir og fyrirtæki starfa samkvæmt. Þetta hefur ekkert með "lögun og innræti" einstaklinganna að gera eins og framkvæmdastjóri SVÞ talar um í grein sinni þegar hann gerir stjórn BSRB upp skoðanir...
24. Desember 2006

...Vonandi boðar þetta lífsmark borgarráðs og borgarstjóra breytta tíð. Það er staðreynd að tveir aðilar eru háðir spilakössunum. Annars vegar eru það spilafíklar, sjúkt fólk sem fjármagnar nýbyggingar hjá Háskóla Íslands, húsnæði undir Guðfræðideildina, Siðfræðistofnun og Viðskiptaskor. Hins vegar eru það þeir aðilar sem fá tekjur sínar frá spilakössunum sem eru þeim háðir. Þetta eru hinir raunverulegu fíklar. Ég hef oft orðið var við reiði þessara aðila þegar amast er við starfsemi þeirra. Ég skildi snemma hvers vegna fáir tóku undir með mér í þinginu að andæfa gegn spilakössunum. Smám saman rann það upp fyrir mér að það er ekki aðeins HÍ sem var undir heldur einnig Rauði Krossinn og Slysavarnarfélagið og fleiri fjölmenn og vinsæl félög.
Gæti fjölmennið, vinsældirnar og góður málstaður þessara félaga vera ástæðan fyrir því að þau eru látin komast upp með að níðast á veiku fólki...?23. Desember 2006
...Er ekki augljóst að væntingar um ríkisstyrkta fjárfestingu í stóriðju, sem nemur 15% af landsframleiðslunni, eru þegar farnar að hafa þensluvaldandi áhrif og að þegar framkvæmdir síðan hefjast muni þensla umfram verðmætasköpun halda áfram að grafa undan þjóðarhag? Og eru ekki fleiri álver einmitt á færibandinu? Þess vegna er ástæða til að spyrja hvort menn séu ekki að sameinast um að stinga höfðinu í sandinn. Hvernig stendur á því að leiðarahöfundar Morgunblaðsins og Fréttablaðsins benda ekki á þessar augljósu staðreyndir? Og hvers vegna botnar Greiningardeild KB banka, sem skilmerkilega hefur fjallað um stóriðjuþensluna og afleiðingar fyrir efnahagslífið, ekki eigin röksemdafærslu og segir hreint út: BURT MEÐ STÓRIÐJUÁFORMIN! Í mínum huga liggur þessi krafa í augum uppi. Annað væri þjóðhagslegt glapræði...
23. Desember 2006
...Það er hrikalegt að hlusta á fjármálaráðherrann og forsætisráðherrann koma fram í fjölmiðlum og segja að það komi þeim á óvart að alþjóðlegt matsfyrirtæki vari við áframhaldandi þenslu í íslensku efnahagslífi...Hvers vegna láta fjölmiðlar þessa menn komast upp með þetta rugl? Að ógleymdum iðnaðarráðherranum sem segir að ríkisstjórnin sé fyrir löngu hætt að reka stóriðjustefnu. Þetta segir þessi ráðherra, sem jafnframt er formaður Framsóknarflokksins, á sama tíma og ríkisstjórnin greiðir götu stórðjunnar sem aldrei fyrr...!
Haffi
22. Desember 2006
...Ég skora á þig að svara eftirfarandi spurningum. 1. Er eðlilegt að ríkið leggi 24,5% virðisaukaskatt á lyf? 2. Ef þú ert ekki sammála því munt þú þá koma fram með tillögu til lækkunar? 3. Munt þú vinna að því að einokun tveggja smásölukeðja í lyfjasölu verði skoðuð og að t.d. samskonar verðsstýringu verði komið á og nú er á innflutningi frumlyfja þ.e. að aðeins verði leyfð 7-13% álagning á lyf í smásölu eins og í heildsölu? eða að álagning í smásölu verði ákveðin af lyfjaverðlagsnefnd eins og er gert fyrir heildsölurnar. 4. Munt þú styðja að samhliðainnflutningur lyfja lúti sömu reglum um verðmyndun, upprunavottun og rekjanleika eins og innflutningur frumlyfja frá umboðsaðilum? 5.Munt þú styðja að leyfisgjöld verði lækkuð og að S merk lyf þurfi ekki að lúta sömu ströngu skilyrðum og lyf á endursölumarkaði varðandi þýðingu ofl. til að ná niður kostnaði? 6. Munt þú beita þér fyrir því að samheitalyf verði á sama verði hér og í Danmörku eins og gert hefur verið varðandi frumlyf? 7. Hefur þú skoðað stærðarmuninn á lyfjamarkaði hér og í Danmörku þar sem allt Ísland er álíka mikill markaður og meðalborg í Danmörku eins og Aarhus...
Sigurður Sigurðarson
22. Desember 2006

...Þykir mönnum þetta vera æskileg þróun? Er það æskilegt að fyrirtækin taki með beinum hætti “
þátt í menntun barnanna okkar, eins og þau taka í auknum mæli þátt í stuðningi við íþróttastarf, menningu, listir og svo framvegis," svo vitnað sé beint í orð Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi. Á undanförnum árum hefur stefna stjórnvalda verið sú að lækka skatta við fyrirtæki en hvetja þau síðan til að koma með
“frjáls” fjárframlög til lista, menningar, líknarstarfsemi og nú menntunar skólabarna. Skyldu menn hafa hugsað til enda hvað þetta þýðir fyrir lýðræðið í landinu? Í stað þess að skattar séu innheimtir og lýðræðislega kjörnir fulltrúar ráðstafi þeim síðan í þágu samfélagsins, eru það nú fjármagnseigendurnir sjálfir sem ákvarða hver skuli menntast og hvernig, hvaða listamaður skuli hljóta náð, hvaða safn verði sett á vetur og hvaða velferðarstarfsemi komist af. Með því að flytja fjárveitingarvaldið frá almenningi og fulltrúum hans til fyrirtækja og fjármálamanna er grafið undan lýðræðinu og við færð nær byrjunarreit 20. aldarinnar þar sem...
20. Desember 2006

...Það má vissulega deila um þá ákvörðun löggjafans að breyta niðurstöðu Kjaradóms á sínum tíma þótt Héraðsdómur taki sérstaklega fram að um þetta geri hann ekki ágreining. En að með ákvörðun sinni hafi Alþingi rýrt sjálfstæði dómstólanna þykir mér sem áður segir harla langsótt. Við skulum ekki gleyma því að fyrrverandi skipan þótti mörgum – þar á meðal þeim sem þetta ritar - aldrei við hæfi því dómarar komu sjálfir að tilnefningu fulltrúa í Kjaradóm og höfðu þannig óbein tengsl við þann sem úrskurðaði um þeirra eigin kjör...Hvers vegna ættu þeir að vera heilagar kýr? Og á meðal annarra orða; er ekki svoldið skondið hve mikinn skilning lögmenn hafa á kjörum lögmanna...?
20. Desember 2006

Síðastliðinn föstudag fögnuðu félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins 60 ára afmæli félagsins en það var stofnað 13. desember 1946, sama ár og Íslendingar fengu yfirráðarétt yfir Reykjavíkurflugvelli frá Bretum og tóku um leið við flugstjórn á Norður-Atlantshafssvæðinu. Stofnfélagar FFR voru 26 en nú eru félagsmenn um 160 talsins. Í tilefni afmælisins var opnuð glæsileg heimasíða FFR og er slóðin á hana...
20. Desember 2006
Það er greinilegt að senn dragi til tíðinda í stækkunarmálum álversins í Hafnarfirði. Það liggur fyrir samningur til undirritunar milli Landsvirkjunar og Alcan um þá orku sem nauðsynleg er vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Það hefur verið haft eftir bæjarstjóra Samfylkingarinnar í Hafnarfirði að íbúaatkvæðagreiðsla um stækkun álversins verið bráðlega, eða eftir að farið hefur verið yfir deiliskipulagstillögu Alcan. Yfir þá tillögu fer nú stór hópur fulltrúa allra þeirra sem eiga kjörinn fulltrúa í bæjarstjórn, en einnig heilir þrír starfsmenn Alcan. Ég sé ekki fyrir mér að markmið hópsins sé annað en að...
18. Desember 2006

...Á fundinum var þess krafist að stjórnarmenn hétu því að fara leynt með upplýsingar um raforkuverðið! Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður í Landsvirkjun og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, lagði þá fram tillögu um að leynd yrði aflétt og færði fyrir því rök. Enginn stjórnarmaður treysti sér til að styðja tillögu Álfheiðar en einn sat hjá, væntanlega Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fulltrúi Samfylkingar. Í Morgunblaðinu er haft eftir Steinunni Valdísi
“að litlu hafi mátt muna að hún hafi fylgt í fótspor Álfheiðar Ingadóttur og gengið af stjórnarfundi” vegna kröfunnar um verðleynd. Þetta þótti Morgunblaðinu greinilega slík tíðindi að með fréttinni af útgöngu Álfheiðar var birt mynd af stjórnarmanninum sem næstum gekk út en ekki hinum sem lagði fram tillöguna og ...
18. Desember 2006
...Gaman að sjá þig á ráðstefnu RSE. Þar sagðir þú að eignarréttindin væru ekki þín uppáhalds mannréttindi. Hver eru þín uppáhalds mannréttindi?
Jóhann J. Ólafsson.
17. Desember 2006
...Reglurnar skipta vissulega máli en hvað um sjálfan leikinn? Er hann í lagi? Er í lagi að gera Landssíma Íslands að fjárfestingarfyrirtæki sem þjónustar landsmenn í samræmi við þann arð sem hvert viðvik gefur? Er í lagi að umbreyta þjóðfélagi okkar og gefa það markaði og græðgi á hönd? Skiptir engu máli að í landinu skuli nú stefna í átt til aukins misréttis, meðal annars vegna einkavæðingarfársins? Skyldu fátækir landsmenn orna sér við þá tilhugsun að milljarðamæringar maka nú krókinn sem aldrei fyrr? Gæti verið að auk þess að tala um leikreglur ættu fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar að fara að dæmi okkar í Vinstrihreyfingunni grænu framboði og tala líka um...
17. Desember 2006
...Við skulum ekki láta blekkjast af stundargróða af völdum braskvæðingar þjóðfélagsins. Þessa dagana er verið að loka útíbúi Íslandspósts í Skipholti í Reykjavík. Enn ein lokunin. Landsbyggðin hefur þó farið mun verr út úr því dæmi en höfuðborgarsvæðið. Það er af sem áður var að Pósturinn nyti sambýlisins við Símann. Nú er hlutafélaginu Íslandspósti hf hins vegar settar strangar markaðsskorður. Síminn er hins vegar löngu orðið fjárfestingarfyrirtæki fyrir eigendur sína og hagar sér sem slíkt – jafnvel þótt við hefðum getað verið óheppnari með eigendur. Hér sendi ég slóð
Grímur
107 Reykjavík
16. Desember 2006
...Formaður var spurður hvort hann ætti einhverja ósk flokknum til handa. Ég hélt að Jón myndi segja að hann vonaði að flokknum auðnaðist að snúa af villu síns vegar, segja skilið við stóriðjustefnuna, einkavæðingarspillinguna, Íraksundirgefnina og misréttispólitíkina. Nei, aldeilis ekki. Framsóknarfóstrinn sagðist eiga þá ósk að Framsóknarflokkurinn fengi sanngjarnan dóm og yrði dæmdur af verkum sínum. Þá er væntanlega vísað til framgöngu flokksins við Kárahnjúka, einkavæðingu þjóðareignanna, misbeitingu valds í þágu pólitískra vildarvina, þjónkun við Bush og Blair og skattastefnu í þágu hinna efnuðu. Auðvitað get ég ekki annað en tekið undir með Jóni Sigurðssyni að...
Haffi
16. Desember 2006

...Í framhaldi af lofgjörð um ágæti einkaframkvæmdar var haft eftir Viðskiptaráðsmönnum að vænta mætti frekari einkaframkvæmdar á komandi árum og var þar m.a. vísað til vegaframkvæmda.
Hvernig væri nú að fréttastofa Sjónvarps legðist í sjálfstæða rannsókn á kostum og göllum einkaframkvæmdar. Til dæmis mætti kanna nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um einkaframkvæmd í vegagerð þar sem þessi kostur er ekki talinn ákjósanlegur fyrir skattgreiðendur... Einkaframkvæmd felur það hins vegar í sér að veita einkaaðila beinan eða óbeinan aðgang að skatthirslum almennings. Hvergi hefur verið gengið lengra á þessari braut en í Bretlandi. Þar hefur einkaframkvæmd reynst afar illa og hafa sérstaklega verið brögð af "framúrkeyrslum"! Í Bretlandi hefur og myndast eftirmarkaður með skóla og aðrar velferðarstofnanir þar sem einkaframkvæmdarsamningar ganga kaupum og sölum!
Á þessari heimasíðu hefur talsvert verið fjallað um rannsóknir á þessu efni og vísa ég hér í ...
15. Desember 2006

...Sannast sagna ætla ég að leyfa mér að halda því fram að heilbrigðisþjónustan verði ekki afgreidd með alhæfingum af þessu tagi eins og skýrsluhöfundar Sivjar Friðleifsdóttur frá Hagfræðistofnun HÍ,
gera í skýrslu sinni. Eða hvenær var það sannað að óheftur markaður tryggði hagkvæmustu nýtingu gæðanna? Ef niðurstaðan er ekki ásættanleg – eins og skýrsluhöfundar sjálfir gefa í skyn að hætt sé við að gerist í heilbrigðiskerfinu - er það þá eftir sem áður hagkvæmasta nýtingin?
Skýrsluhöfundar virðast þannig ekki aðeins vera í mótsögn við Landlæknisembættið varðandi mannaflaþörfina heldur einnig við sjálfa sig varðandi pólitíkina...14. Desember 2006
...Ég geri mér grein fyrir því að framsóknarmenn ætla að reyna að varpa ljósi á eitt og annað sem hjá R-listanum átti sér stað, jafnvel þótt þeir sjálfir hafi átt aðild að því samstarfi. Björn Ingi byrjaði að reyna að fletta ofanaf spillingu R-listans í Kastljósþætti gærkvöldsins. Menn eiga eftir að spyrja að því hvort e.t.v. verði hægt að spyrða fulltrúa vinstrimanna við spillingu. Menn munu kafa djúpt og kalla eftir viðbrögðum við hverju því sem kann að finnast. Og svona ykkur að segja þá hræðist ég ekki ofsóknir á hendur borgarfulltrúum Vinstri - grænna, því ég mun sjálfur taka þátt í því að opinbera allan þann sannleika sem þarf að koma fram...
14. Desember 2006
Mig langar til að þakka þér fyrir prýðilega hugvekju um gjörninginn hennar Rúrí á Þingvöllum í sumar. Það fór nefnilega fyrir mér eins og þér að með gjörningnum lifnaði sagan – hún öðlaðist líf. Rúrí gaf að nýju lífið stúlkunum sem samferðamenn þeirra – samfélag fyrri tíðar – ofsótti og tók af lífi á grimmilegan hátt. Ég tek undir hvert orð sem þú skrifaðir í pistli þínum um þennan gjörning og...
Ólöf
14. Desember 2006

Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að færa öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli undir opinbera aðila að nýju. Eins og fram kom í fjölmiðlum í sumar var einkafyrirtæki falið að annast hluta öryggisgæslunnar gegn hörðum mótmælum Landssambands lögreglumanna, Tollvarðafélags Íslands og heildarsamtakanna BSRB.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er í samræmi við ...
13. Desember 2006

Í rannsóknarskýrslu sem unnin er af Lýðheilsustöð og Háskólanum á Akureyri og er hluti fjölþjóðlegrar samanburðarrannsóknar kemur fram að börn sem búa við fátækt á Íslandi hreyfi sig minna en önnur börn, borði sjaldnar hollan mat og séu líklegri til að vera of þung og feit en börn efnameira fólks. Í
Morgunblaðinu í dag er leitað eftir viðbrögðum stjórnvalda við þessum niðurstöðum...Ég gef lítið fyrir orð ríkisstjórnar sem skrifar undir alla fínu sáttmálana í útlöndum, gefur út fjálglegar yfirlýsingar um mikilvægi þess að hafa heilbrigði að leiðarljósi við stefnumótun en gerir síðan eitthvað allt annað. Hvers vegna skyldi Lýðheilsustöð hafa verið sett á laggirnar fyrir þremur árum? Til að monta sig af framtakinu? Til að virða orð hennar, viðvaranir og ábendingar að vettugi? Hvers vegna er fremur hlustað á sjónarmið gosdrykkjaframleiðenda en talsmenn hollustunnar? Væri ekki rétt að...
13. Desember 2006
Það sem mig langar að spyrja þig um snýr að olíufélögunum, sá í fréttum að eitt af þeim vann mál í héraðsdómi, varðandi verðsamráðið. Það sem mig langar að vita er, hversu lengi ætlar alþingi að leyfa þeim að stunda verðsamráð eins og þeir gera í dag. Það er ekki einu sinni þannig að félögin séu að fara leynt með það heldur auglýsa þau verðhækkanir í fjölmiðlum. Það er, hvort sem fólki líkar betur eða verr, ekkert annað en verðsamráð. Sá fyrsti sem ákveður að hækka verð sendir hinum upplýsingar um það í fjölmiðlum svona...
Baldur
12. Desember 2006

...Þannig hefur Samfylkingin lýst vilja til að hafa umhverfis- og náttúruverndarsjónarmið meira í hávegum og hefur þar verið vísað í stefnumótunarplagg flokksins frá því í haust.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu sl. laugardag, undir fyrirsögninni,
Nú skynja ég erindið, að flokkur sinn sé
“eini flokkurinn sem hefur lagt fram skýrar tillögur til framtíðar um hvernig á að takast á við umhverfismálin.” Þetta eru undarleg ummæli þegar horft er til þeirrar miklu vinnu og geysilegu áherslu sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt á umhverfismál. VG hefur lagt fram kröfur, hugmyndir, stefnumótun á þessu sviði og skoðað umhverfismálin frá öllum sjónarhornum: náttúrunni í nánd og einnig í stærra samhengi, efnahagslífinu og byggða- og samfélagsmálum. Látum vera að formaður Samfylkingarinnar lýsi ánægju með stefnu síns flokks en slík sending til okkar í Vinstrihreyfingunni grænu framboði þykir mér ekki beinlínis vera í anda þeirrar
víðsýni og þess
umburðarlyndis sem Ingibjörg Sólrún segist bera mjög fyrir brjósti í umræddu viðtali. Auðvitað vilja allir stjórnarandstöðuþingflokkarnir að þeir ...
12. Desember 2006
Merkilegt var að fylgjast með þeim Geir H. Haarde, formanni Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar rífast um það í Kastljósi Sjónvarpsins hvort væri harðdrægara í skattaniðurskurði. Ingibjörgu Sólrúnu þótti ekki gengið nógu hart fram gagnvart landbúnaði en Geir varðist og sagði að stuðningur við landbúnaðinn yrði skorinn niður með tíð og tíma! Hvort þeirra skyldi vera ...
Haffi
11. Desember 2006
Heill og sæll og til lukku með gott gengi í forvalinu. Það er stundum haft á orði að við kjósendur höfum ekki minni nema á við þokkalega greinda gullfiska. Þetta er líklega rétt. Ég var nefnilega á gangi yfir Lækjargötuna hér í borg fyrir nokkrum dögum þegar að framhjá mér ók maður sem ég áttaði mig á að ég átti að muna hver var (er) - en mundi ekki. Ég gekk áfram vestur Austurstræti og snaraði mér inn í bókabúðina sem eitt sinn var kennd við Eymundsson (eitthvað hefur víst aukist á henni nafnið - man bara ekki á hvaða lund). Þar sem ég fer að fletta í jólabókunum rekst ég á væna bók um Ólafíu Jóhannsdóttur, þann kvenskörung og mannvin. Sem ég er að handleika þá bók rifjast upp fyrir mér hver maðurinn var sem ók framhjá mér...
Guðmundur Brynjólfs.
10. Desember 2006
Lífið snýst ekki bara um viðskipti, sagði bóndinn á Bakka, heldur um börn, fjölskyldu og samfélag. Heyrt hef ég í fólki sem tendraðist upp. Einn þeirra var fyrrum skólameistari bændaskólans á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði, þar áður bóndi í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi og enn lengra aftur bóndasonur á Ströndum. Þetta er að sjálfsögðu
Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.
Jón Bjarnason hringdi í mig í kvöld og spurði hvort ég hefði heyrt þetta viðtal við Ásthildi Skjaldardóttur. Það hafði ég ekki gert en hlustaði á það á netinu að ráði Jóns. Eftir að hlusta á viðtalið við Ásthildi skil ég hvers vegna
Jón Bjarnason hafði hrifist.
Það er einfaldlega traustvekjandi að hlusta á fólk sem hefur trú á sjálfu sér, íslenskum landbúnaði og að hann eigi erindi inn í framtíðina. Í kvöld segir ...
8. Desember 2006
27.000 milljarðar er sagður kostnaður Bushstjórnar við að hrella Íraka frá í mars 2003 skv. fréttum. Það svarar til milljón króna á sérhvern íbúa í Írak og dauðadansinn dunar enn ! Íbúar annarra þróunarlanda heimsins óska sér örugglega ekki að milljón sé sett til höfuðs lífi sérhvers eða hamingju. Bandarískir vígamenn Bushstjórnar hafa gert þarfir sínar í Afganistan með þeim hætti, sem heimurinn þekkir. Landið særða og fátæka er nú einhver versti eymdarstaður jarðar. Öll reisn er frá fólki tekin, atvinnulíf lamað,landbúnaðarjörð víðast ónýt og áveitukerfin. Ekkert skólastarf þrýfst né heldur heilsugæsla eða almenn stjórnsýsla. Félagstrygging er engin í landi hundruð þúsunda ekna og munaðarleysingja. Valdi er ...
7. Desember 2006
Reyndar vissu það allir sem eitthvert vit hafa að aðild okkar Íslendinga að stríðinu í Írak var byggð á röngum forsendum. Og reyndar sjá það margir í dag að helreið þessi verður vart talin annað en glæpur gegn mannkyninu þegar fram líða stundir. Jafnvel þótt sá glæpur verði að lúta því lögmáli að flokkast sem tæknileg mistök þá verður ekki framhjá því litið að þeir misvitru menn sem á málum héldu eru sekir um alvarleg afglöp í starfi. Nú keppast Geir Haarde og Jón Sigurðsson um að tala í tuggum og hálfkveðnum vísum og segja að líklega hefði nú verið betra að fara einhvern veginn öðruvísi að. Þeir forðast þó eins og heitan eldinn þann möguleika að einhver verði dreginn til ábyrgðar. Og auðvitað mun ríkisstjórn Íslands ekki biðja neinn...
7. Desember 2006

Nú reynir á hvort stjórnvöld vilji hlíta þessari ráðgjöf. Fyrir Alþingi liggur nefnilega frumvarp sem Lýðheilsustöð þykir í einu veigamiklu efni stríða gegn manneldissjónarmiðum. Þetta er frumvarp sem gengur út á lækkun vörugjalda og virðisaukaskatts á matvæli. Flestir hafa fagnað þessu frumvarpi að öðru leyti en því sem lýtur að lækkun virðisaukaskatts á gosdrykki. Það er einmitt þessi þáttur sem Lýðheilsustöð gagnrýnir.
Í bréfi sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis barst í dag frá Lýðheilsustöð vegna þessa frumvarps segir meðal annars...5. Desember 2006
Sæll, Ögmundur og til lukku með fínann árangur þinn, í forvalinu. Hefði þér samt ekki frekar þótt við hæfi, að góðir sjómenn og verkamenn hefðu komizt einhverri skör ofar, á listanum en þetta menntafólk upp á bókina, sem kappnóg er af; fyrir á Alþingi ? Við þurfum fólk, með þjóðlegar artir, og góðar kenndir til landsins sjálfs nú á þessum síðustu tímum. Miklu frekar vil ég þakka þér þá ábendingu, sem þú gafst Birgi Ármannssyni, kollega þínum á Alþingi, á dögunum. Það er nóg komið, af útrásar sjálfbelgingnum og monti ný-kapítalistanna, víðsvegar um veröldina, ekki satt Ögmundur? Það vill oft brenna við...
Óskar Helgi Helgason frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum
4. Desember 2006
Inná þing ég ekki fer
þó er nú sem ég finni
að mikið framboð af mér er
en eftirspurnin minni.
Kristján Hreinsson
3. Desember 2006
Birtist í Morgunblaðinu 2. 12. 2006
Í stað þess að leysa mannréttindavanda, óréttlætið í Miðausturlöndum, yfirgang, koma í veg fyrir að heimska og hefndarþorsti vanhæfra stjórnenda á Vesturlöndum ráði ferðinni, er búin til óttatilfinning og síðan falskt öryggi. Hvað ætlum við að láta þetta viðgangast lengi? Rétta fulltrúar Íslands alltaf upp höndina þegar ákveðið er að leita í tannkremstúpunum, gera sjampóið upptækt að ógleymdum naglaklippunum. Mér er minnisstæður fréttamannafundur í Kaupmannahöfn...
2. Desember 2006

Í dag, laugardag, fer fram forval hjá Vinstrihreyfingunni Grænu framboði á höfuðborgarsvæðinu.
Ég hvet alla félaga í VG á þessu svæði að nýta sér atkvæðisrétt sinn og taka þátt í að velja frambjóðendur fyrir alþingiskosningarnar næsta vor.
Kjörstaðir eru opnir frá 10 til 22.
Seltirningar og Reykvíkingar, aðrir en þeir sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti kjósi í Suðurgötu 3, Reykjavík.
Kópavogsbúar, Garðbæingar, Álftanesbúar og Hafnfirðingar, kjósi á Strandgötu 11 í Hafnarfirði.
Reykvíkingar sem búa í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti, Mosfellsbæingar og Kjalnesingar kjósi í Mosfellsbæ.
Vel kann að vera að einhver þátttakandi í forvalinu óski eftir að kjósa á öðrum kjörstað en þeim sem hér er tilgreindur. Sé svo skal...2. Desember 2006
Birtist í Blaðinu 01.12.06.
...Íslendingar gleðjast jafnan þegar landinn gerir „ það gott“. Það er út af fyrir sig prýðilegt. En við megum aldrei gleyma því að það skiptir máli hvernig – það er að segja á hvern hátt – við gerum það gott. Þetta snýst ekki um það eitt að maka krókinn. Enda þótt tónn Birgis Ármannssoar sé oft tiltöllega mildur og þýður – þá er það nú ekki alltaf svo. Hann þyrfti að taka sig á; leggja eyrun niður við grasvörðinn og gerast eitt með því landi og því samfélagi sem skóp hann. Þá mun hann skilja að hagsmunir okkar sem þjóðar, sem samfélags, fara ekki endilega saman við hagsmni auðmanna. Fjallræður peningamannsins eru ekki bestu vegvísar í þessu...
2. Desember 2006
Ég var spurður um daginn hvað ég kysi. Án þess að vita nákvæmlega hvaða kosningar eða kosti væri átt við svaraði ég hátt og skýrt “vinstri”. Uppi varð fótur og fit og ég spurður hvort ég vildi semsagt borga hærri skatta. Ég svaraði viðstöðulaust, “já!” Þá sló þögn um sig á kaffistofunni og starað var á mig stórum augum. Ég sagðist vilja að tekjum mínum væri ráðstafað fyrir mig á sem bestan hátt fyrir mig og alla. Þá var ...
K.I.P.
2. Desember 2006
...Þá gerist það að hann hættir sjálfviljugur í því embætti sem hann bað um að fá að gegna út kjörtímabilið og vegna þess að þess er getið í samningi hans við sveitarfélagið, að hann megi þiggja biðlaun í sex mánuði, þá ætlar hann að þiggja þau laun. Ef hér væri spurt um rangt og rétt þá myndum við velta því fyrir okkur að biðlaun mannsins samsvara því sem leikskólakennari fær í útborguð laun á sex árum. Og við myndum spyrja okkur að því hvort stjórnmálamönnum eigi að líðast það að ganga á bak orða sinna og þiggja auk þess tvöföld laun fyrir það að segja ósatt. Þingmenn verða að...
1. Desember 2006
Þessu er beint til þín, Ögmundur, sem þátttakanda í forvali Vg 2.des næstkomandi: Kæri frambjóðandi. Munt þú koma til með að beita þér fyrir því að hjólreiðabrautir komist í vegalög, svo hjólreiðar verði raunhæfur samgöngukostur í
Heimir Viðarsson
1. Desember 2006
Birtist í Fréttablaðinu 30.12.06.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson spyr í Fréttablaðsgrein 10. nóvember síðastliðinn hvort Rousseau sé kominn í stað Marx í stjórnmál samtímans, rómantíkerinn í stað efnishyggjumannsins. Báðir fá þeir Rousseau og Marx slæma einkunn hjá háskólaprófessornum þótt hann virðist kunna betur á bókhaldið en tilfinningarnar og eigi þar af leiðandi auðveldara með að skilja efnishyggjumanninn Marx.
Hannesi Hólmsteini er nokkur vorkunn. Við lifum á tíma græðginnar. Öll andmæli heita öfund, öll gagnrýni heitir að vera á móti! Annnað hvort sem kommúnisti eða sem rómantíker. Þess vegna vísan í Rousseau og Marx. Sá hópur fólks sem vill andæfa lífi í græðgi hefur í dag “rangt fyrir sér”. Þetta er samkvæmt boðendum fagnaðarerindis óheftrar frjálshyggju “röng lífsskoðun”. Getur lífsskoðun nokkurn tímann verið „röng“? Þegar allt kemur til alls snýst málið um hvernig...
1. Desember 2006

Birtist í Morgunblaðinu 30.12.06.
Það er áhyggjuefni að sjúkrahús landsins skuli rekin með halla. Hvers vegna skyldi það vera áhyggjuefni? Þetta er verðug spurning í ljósi þess hve ágengur hallarekstur sjúkrahúsa er orðinn í þjóðfélagsumræðunni. Auðvitað er það svo að í rekstri sjúkrahúsa er margt sem betur mætti fara, og hef ég ekki sagt mitt síðasta orð í því efni. En hitt er þó staðreynd að hallareksturinn á Landspítala- háskólasjúkrahúsi, svo dæmi sé tekið, er tilkominn vegna þess að Jón Jónsson þurfti að láta gera að viðbeinsbroti og þó ekki síður vegna hins að nýrnadeild spítalans er farin að vinna kraftaverk, veita sífellt fleira fólki þá þjónustu, lækningu og stuðning sem best gerist í heiminum! Er þetta áhyggjuefni? Nei. Þetta er að sjálfsögðu fagnaðarefni. Hitt er áhyggjuefnið að menn skuli láta niðurskurðarpólitíkusana ráða...
30. Nóvember 2006
Að undanförnu hefur umræða um fordóma verið fyrirferðarmikil í íslenzku samfélagi. Ekki er alveg ósennilegt að fyrirferðin tengist því þungunarástandi sem jafnan skapast þegar þingkosningar eru í nánd. Stjórnmálaflokkarnir vilja fá að vita hvaða fylgi þeir „eiga" tryggt svo markviss sókn megi hefjast í fylgi annarra flokka. Engan afla virðist lengur að hafa á grunnslóð og því er nú sótt á djúpið.
Jæja, og hvað er konan að fara? Enginn kannast við að hafa fordóma af því það er svo ljótt. Fólk vill hafa opna umræðu, horfast í augu við staðreyndir eða er bara raunsætt. Orðræðan undanfarnar vikur hefur einkum snúizt um fjölgun útlendinga á Íslandi. Sumir eru reyndar svo hræddir við að verða ásakaðir um fordóma að þeir geta ekki einu sinni sagt útlendingar, heldur tala um ...
29. Nóvember 2006

Yfirleitt er samtíminn blindur á sjálfan sig. Gjörningur Rúríar minnti okkur á blindu liðinna tíma, ólýsanlega heimsku og grimmd, forræðishyggju og ofbeldi. Ég var ekki viðstaddur þennan gjörning en svo sterkt orkaði frásögnin og lýsingin á honum á mig að mér þótti með honum beint að mér og mínum samtíma spurningu; ágengri spurningu. Erum við ef til vill eins blind á misréttið sem viðgengst okkar á meðal eins og 17. aldar forverar okkar voru? Er ef til vill bjálki í okkar auga sem byrgir okkur sýn á samtímann? Gjörningur Rúríar er tileinkaður konum sem urðu fyrir ofbeldi fyrr á tíð. En hann er jafnframt áskorun um að litast um í samtímanum með opin augu. Gjörningur Rúríar heppnaðist. Hann opnaði ...
29. Nóvember 2006

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi fyrir sjálfsákvörðunarrétti palestínsku þjóðarinnar efnir félagið Ísland Palestína til samstöðufundar á Hótel Borg í kvöld, miðvikudag kl. 20, þar sem Ziad Amro, helsti frumkvöðull blindra og fatlaðra og stofnandi Öryrkjabandalags Palestínu, er aðalræðumaður. Hann mun fjalla fjalla um áhrif hernáms á líf þjóðar, með sérstakri áherslu á fólk með fötlun. Ziad missti sjálfur sjónina af völdum hernámsins.
28. Nóvember 2006
Upplýsingarnar um að heima - og vinnusímar Hannibals Valdimarssonar hafi verið hleraðir eru enn eitt áfallið fyrir íslensk stjórnvöld. Nei, þetta er enn eitt áfallið fyrir íslenskt samfélag. Falleinkunn hins unga íslenska lýðveldis. Og það er ekki aðeins að brotið hafi verið á Hannibal Valdimarssyni. Það var brotið á allir fjölskyldunni. Hvers átti Sólveig Ólafsdóttir eiginkona Hannibals að gjalda? Ógnaði hún öryggi ríkisins? Hvers áttu börn Hannibals að gjalda sem notuðu heimasímann 1961, barnabörnin, vinirnir eða skyldmennin sem notuðu símann? Brotin gegn þessu fólki og öðrum sem beittir voru órétti af því tagi sem íslenska ríkið gerði sig sekt um eru svo alvarleg að ekki verður við unað. Handhafar þess valds sem fóru fram á að brotið væri gegn helgum rétti einstaklinga eru aumkunarverðir þótt tekið sé...
Ólína
28. Nóvember 2006
Það hefur verið dálítið sérstakt að fylgjast með viðbrögðum héðan og þaðan við þeirri tilraun sem formaður Framsóknarflokksins gerði nýlega til að losa sig við einn versta erfðagripinn í búinu sem Halldór Ásgrímsson lét honum eftir í sumar. Með hæfilega tæknikratískri loðmullu um ófullnægjandi ákvarðanatökuferli og rangar forsendur kom Jón Sigurðsson því í loftið að stuðningur ríkisstjórnarinnar við innrásina í Írak 20.03.2003 hefði ekki átt rétt á sér. Flokkssystir Jóns í utanríkisráðuneytinu, Valgerður Sverrisdóttir, fór ekki dult með þá skoðun sína að gamla línan væri betri í málinu. Miðað við þær upplýsingar sem hefðu legið fyrir á sínum tíma, hefði stuðningurinn verið réttur og hún myndi leggjast á sömu sveifina á sömu forsendum enn þann dag í dag. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, fór með nálega sömu þuluna þegar fréttastofa Sjónvarpsins spurði hana út í málið...
28. Nóvember 2006

...Nálgun Guðna Ágústssonar er hins vegar röng í tvennum skilningi. Í fyrsta lagi er rangt að skírskota til
vilja þjóðarinnar í því samhengi, sem Guðni gerir. Vilji hennar lá alltaf ljós fyrir. Ítrekað sýndu skoðanakannanir að þjóðin var andvíg árásarstríðinu. Það var því íslenska ríkisstjórnin sem misnotaði íslensku þjóðina en ekki Bush. Í öðru lagi var það íslenska ríkisstjórnin sem einhliða tók ákvörðun sína um að lufsast með þeim Bush og Blair þrátt fyrir að þær upplýsingar, sem nú liggja fyrir væru öllum sem vildu vita morgunljósar. Hér vísa ég í frábæra grein
Steinþórs Heiðarssonar, hér á vefsíðunni. Þar segir á meðal annars:
Til að gera langa sögu stutta, lágu fyrir allar þær upplýsingar sem þurfti til að taka rétta ákvörðun í þessu afdrifaríka máli, bæði um stöðu mála í Írak og þau hagsmunasambönd sem sköpuðu samstöðu innrásarríkjanna. Það sem íslensku ráðherrana – Davíð, Halldór, Geir, Þorgerði, Valgerði og öll hin – skorti í raun og veru var einfaldlega ...27. Nóvember 2006
...Í þessu ljóði er farið í flugferð upp jökulfljótin á Norðausturlandi, Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá á Dal, sem nú er verið að afmá af yfirborði jarðar. Farið er og stiklað yfir eldfjallasvæðið norður af Vatnajökli sem á sér engan líka í heiminum, yfir Herðubreið, einstæðan stapa sem varð til í samskonar eldgosi undir ísaldarjökli og eldgosinu í Gjálp, - yfir Öskju þar sem tunglfarar komu 1967 og Rudloff og Knebel hurfu 1907 og síðan hefur verið reimt, - þar næst yfir Kverkfjöll þar sem m. a. rennur volg á í íshelli. Að lokum er farið snöggt yfir Þingvelli, Heklu, Kverkfjöll og Öskju og niðurstaðan dregin saman. Hér kemur þetta í heild. Mestur hluti ljóðsins er...
27. Nóvember 2006
Ég vil byrja á að þakka þér fyrir þessa mjög svo góðu heimasíðu þína, hún er öðrum til eftirbreytni. En eitt er það sem hefur verið að trufla mig undangengnar vikur, það eru ummæli þín um bankana og þátt þeirra í vaxandi ójöfnuði hér á landi. Áður en ég geng að kjörborðinu nú á vori komanda verð ég að vita hvort þetta sé eitthvað sem þú og þínir flokksbræður-og-systur komið til með að ...
Sigurjón Njarðarson
26. Nóvember 2006
Hlustaði á ritstjóra Morgunblaðsins segja frá lífi sínu og samferðamanna sinna í kvöld og fannst hann mannlegur af því hann er augsýnilega breiskur. Hann sagði frá því af hverju hann kaus á þessari öld að birta ekki einkagögn sem hann gerði útá á síðustu öld. Hér á ég við hin persónulegu Baugsgögnin annars vegar, sem hann geymdi í skúffu sinni, og hins vegar SÍA skjölin sem hann birti á sínum tíma þótt gögnin væru bæði persónuleg og stolin. Birting á hvoru tveggja fór fyrir dómsstóla. Mér fannst hann líka mannlegur af því hvernig hann talaði um vini sína sem hann leggur sig fram um að halda góðu sambandi við. Það rennur líka í honum réttlætistaug í samfélagsmálum. Kannski var það þess vegna sem þeir kölluðu hann...
Ólína
26. Nóvember 2006
...Lokaði Davíð ekki "vitleysumræðunni" um Íraksstríðið með yfirlýsingu um að það væru allir Írakar himinlifandi með innrásina utan að það væru einhverjar hnippingar og minniháttar áflog í einum fimm hreppum sem litlu máli skiptu náttúrlega í svona stóru samhengi. Og enn koma mér í hug orð eins bóndans og sóknarbarns afa míns fyrir vestan þegar hann bar sig upp vegna ósmekklegrar orðræðu granna sinna um hann ómaklega: "Ef þetta eru menn, séra Árni, af hverju er ég þá ekki eitthvað meira en maður".
Árni Gunnarsson frá Reykjum.
26. Nóvember 2006

...Sannast sagna finnst mér að Egill mætti vera ögn örlátari á vitsmuni sína en hann stundum er í þætti sínum. Ég tala nú ekki um þegar í hlut á maður, sem telur sig þess umkominn að tala niður til fólks sem hann dæmir úr leik sökum
"heimsku". Það er vandasamt verk að stýra þjóðfélagsumræðunni, leggja út af orðum manna og setja þau í samhengi sem er gefandi fyrir framhald umræðunnar. Kannski Egill Helgason ætti að temja sér að lesa meginmálið betur, til dæmis hjá mönnum á borð við Noam Chomsky, sem mig rámar í að hann hafi einhverju sinni slegið um sig með. Hann gæti þá lært sitthvað um fjölmiðla, talsmenn og valdsmenn.
Ef Egill var göslandi í yfirborðinu má segja að Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, hafi haldið sig á djúpsævi í Kastljósi Sjónvarpsins...
25. Nóvember 2006
Mig langar til að forvitnast um hvort ykkur v.g. sé alvara með að auka réttlæti þeirra innflytjenda sem hér búa hvað varðar laun og húsnæði? og hvort að þið hafið kannað hvort að Íslendingar myndu láta bjóða sér að búa við þær aðstæður sem margir ss. Pólverjar þurfa að búa við þ.e. í gámum sem staðsettir eru á vinnusvæðum. Dæmi eru gámar við nýja Ikea húsið og Loftorku í Borgarnesi og fyrir ofan Húsasmiðjuna í Reykjanesbæ. Ég er nefnilega að finna mér stað í flokki ...
Hrönn Guðmundsdóttir,
24. Nóvember 2006
...Við veltum fyrir okkur af hverju sjónvarpið hefði tekið að sér að betrekkja strætó í Reykjavík með auglýsingum um “upplýst fólk”. Ein okkar sem býr á Akureyri sagði að þetta ráðslag stingi í augu utanbæjarmanns sem heimsækti borgina þessa dagana. Önnur velti fyrir sér hvort auglýsingafé þessu væri ekki betur varið í framleiðslu innlends menningarefnis sem útvarpsstjóranum er svo tamt um að halda á lofti í aðdraganda einkavæðingar og sumir listamenn lofa og prísa. Kannske eru þeir í auglýsingageiranum? Svo ræddum við hvernig á því stæði að stofnun sem stærir sig af metáhorfi kvöld eftir kvöld, stofnun sem nýtir sér ríkistryggða yfirburði gagnvart keppinaut á markaði sem reyndar horfir upp á hrun á hlutabréfamarkaði meðal annars vegna frumvarps menntamálaráðherra, teldi sig þurfa að..
Ólína
23. Nóvember 2006
Þótt ég skammist mín ekki neitt sérstaklega fyrir það að þjóð mín sé yfirleitt hálf, þá skammast ég mín svo sannarlega fyrir þann helming hennar sem styður helmingaskiptaveldið. Ég sagðist í sjónvarpsviðtali um daginn, ekki vilja þurfa að skammast mín fyrir að vera Íslendingur, sagði að ég væri búinn að fá nóg af spillingunni og ætlaði af þeim sökum að stökkva í stjórnmálin og bjarga því sem ég get hugsanlega bjargað. Ég hef þurft að hugleiða skömmina oft og mörgum sinnum í þeirri stjórnartíð sem brátt er á enda. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég las um það í blöðunum að íslenska þjóðin væri komin í stríð við Írak. Og ég hef margoft komist ansi nálægt því að blygðast mín fyrir þjóð mína þegar ég hef horft á það hvernig áformum um virkjanaframkvæmdir og stóriðju hefur verið þvingað gegnum þingið og...
22. Nóvember 2006

Laugardaginn 2. desember næstkomandi fer fram forval hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði í Reykjavíkurkjördæmunum báðum og Kraganum ( þ.e. Álftanesi, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi). Atkvæðagreiðslan fer fram sameiginlega enda náðist samkomulag um að frambjóðendur yrðu allir reiðubúnir að fara fram í því kjördæmi sem kjörstjórnin telur heppilegast að viðkomandi fari fram. Reglur í prófkjörinu er þær
að allir sem hafa skráð sig í VG í þessum kjördæmum fram til kl. 17:00 þann 25.nóvember, þ.e. næstkomandi laugardag, geta tekið þátt í forvalinu. Hægt er að skrá sig á heimasíðu flokksins, vg.is eða með því að smella á þetta netfang:
http://www.vg.is/default.asp?page_id=6177Þeir sem búa
erlendis verða að óska eftir því að fá sendan kjörseðil fyrir
24. nóvember. Það geta þeir gert með því að senda tölvupóst á netfangið vg@vg.is.
Ég hvet stuðningsfólk VG til þess að ganga í flokkinn fyrir þennan tíma - fyrir vikulokin - og taka þátt í því að velja...22. Nóvember 2006
...Það er ekki nóg að vera endalaust að þvarga um virkjanir og mengun á meðan að fólk á hvorki til hnífs né skeiðar, á meðan að geðfatlaðir eiga vart húsaskjól, á meðan að spilafíklar hafa í fá hús að venda, á meðan að alkahólistar horfa örvæntingafullir á fagaðila þrasa um hæfi hvers annnars, á meðan að ungar stúlkur ganga kaupum og sölum á götum borgarinnar. Við sem erum í VG þurfum að staldra við nú þegar að nálgast kosningar og þó fyrr hefði verið - það er fátækt á Íslandi og böl af öllum sortum, það er það sem fyrst þarf að laga. Segiði mér svo af virkjunum og grænum túnum...
Guðmundur Br.
21. Nóvember 2006
Sú lýðræðislega ákvörðun bæjarstjórnarinnar í Hafnarfirði 2002, að Hafnfirðingar skyldu fá að kjósa um allar stórar ákvarðanatökur bæjarins eru þakkarverðar og ómetanlegar. Því þurfum við að kynna okkur málið frá öllum hliðum og spyrja spurninga. Er hagkvæmt fyrir okkur Hafnfirðinga að samþykkja stækkun verksmiðjunnar í Straumi? Er það hagkvæmt fyrir okkur Íslendinga að virkja meira, sökkva stærra landi, bora í fleiri eldstöðvar, eingöngu til þess að geta annað sífellt viðbótar kröfum útlendra auðhringa, til að fá ódýra orku á okkar fagra landi. Er ekki búið að virkja nóg í bili? Er ekki gott að staldra aðeins við? Ég nem við Háskóla Íslands. Þar flutti Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar, erindi og lofaði framkvæmdagleði og framsýni fyrirtækisins og virtist mikið framundan. Eftir klukkustundar langa tölu, mátti salurinn koma með fyrirspurnir. Ég spurði...
21. Nóvember 2006
Ég vil að þið komist í stjórn og hækkið skattleysismörk - uppí 150. 000. Ég er öryrki og bý í húsnæði sem er 23 fm.. En það er sumt á stefnuskrá ykkar sem ég er samt mjög hrædd við. Ég þekki hagfræðinga og þeir eru algjörlega sammála um það að hækka fjármagnstekjuskatt verði til þess að minna komi í ríkiskassann. Af hverju ætlið þið þá að gera það? Sjálf er ég sammála um að þetta skilar minna. Það má heldur ekki gera neitt svona sem veikir atvinnulífið, svo mikið skil ég, og þarna finnst mér þið stundum algjörir glannar. Auk þess...
Öryrki
21. Nóvember 2006
...Málið um verðsamráð olíufélaganna hefur loksins verið dómtekið. Samkvæmt öruggum heimildum Valhallar er þessi óvænta stefna sem málið hefur nú tekið mikill léttir fyrir forstjóra olíufélaganna enda er það samdóma álit þeirra að um venjuleg tæknileg mistök hafi verið að ræða. Fleira er..
Úr sarpi Þjóðólfs
21. Nóvember 2006

Umfangsmiklar stóriðjuframkvæmdir eru nú í bígerð. Þegar er hafinn undirbúningur að stækkun álversins í Straumsvík um 250 þúsund tonn, þ.e. úr 180 þúsund tonnum í 460 þúsund tonn og á teikniborðinu er álver í Helguvík upp á 250 þúsund tonn og nýtt áver við Bakka á Húsavík upp á 250 þúsund tonn. Enda þótt endanlegar ákvarðanir liggi ekki fyrir t.d. varðandi stækkun í Straumsvík hefur tveimur teiknistofum þegar verið falið að
gera tillögur um nýja kerskála í samræmi við óskir Alcan um stækkun álversins! þetta kom fram á opnum fundi ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði á sunnudag sem sagt hefur verið frá hér á síðunni...Þetta kom mér upp í hug við lestur áhugaverðrar greinar Margrétar Guðmundsdóttur hér á síðunni þar sem hún hvetur til þess að landsmenn íhugi þá valkosti sem þjóðinni bjóðast um atvinnuuppbyggingu. Hún vill að við eflum Ísland til þess að verða...
20. Nóvember 2006

...Þetta væri umhugsunarvert, sagði Ómar Ragnarsson. Hann sagði að sú tíð væri liðin að við gætum rætt þessi mál út frá þröngu sjónarhorni. Hér væri ekki aðeins um að ræða málefni sem snerti Hafnfirðinga eina heldur landsmenn alla. Ef heimild yrði veitt fyrir stækkun í Straumsvík yrðu menn að vera undir það búnir að fórna Brennisteinsfjöllum og fleiri náttúruperlum. Ómar endaði eldmessu sína í bundnu máli og var það mjög áhrifaríkt. Um kvöldið sáum við Ómar Ragnarsson síðan taka við verðlaunum sem sjónvarpsmaður ársins á verðlaunahátíð íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Þar er maður sem er vel að verðlaunum kominn. Til hamingju Ómar Ragnarsson! Til hamingju Íslendingar að við skulum eiga mann á borð við Ómar Ragnarsson!! Væri ekki ráð að ...
19. Nóvember 2006

Það gladdi hjarta mitt á Degi íslenskrar tungu að Nirði P. Njarðvík skyldu hlotnast verðlaun Jónasar Hallgrímssonar að þessu sinni. Njörður er þessara verðlauna mjög verðugur og vissulega tók hann sig vel út á forsíðu Morgunblaðsins 17. nóvember þar sem hann hélt um risavaxna ávísun merkta Glitni. Hönd á ávísun Glitnis hafði einnig menntamálaráðherra vor,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Til hliðar við þau stóð svo stjórnarformaður Glitnis, Einar Sveinsson, og brosti af æðruleysi. Myndin bar með sér að hann var veitandinn í þessari menningarveislu. Allir í fínu skapi enda tilefni til. Rithöfndur heiðraður í nafni listaskáldsins góða. Menn hafa glaðst yfir öðru eins. Eitthvað var þó bogið við þessa athöfn. Ég held að mörgum hafi fundist ...
18. Nóvember 2006

Í gær fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur ráðstefna um málefni
eldri strarfsmanna en ráðstefnan var haldin til heiðurs
Sjöfn Ingólfsdóttur fyrrverandi formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Eftrifarandi ræða var þar flutt:
Þessi ráðstefna fjallar um vinnumarkaðinn, sérstaklega stöðu eldra fólks og hún er haldin til heiðurs Sjöfn Ingólfsdóttur, félaga í verkalýðshreyfingunni til áratuga, formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar til margra ára, varaformanni BSRB í áratug, fulltrúa launafólks í nefndum og ráðum, sjóðum og stofnunum innanlands og utan. Hér ægir mörgu saman. En þannig er líka lífið. Ekki síst á okkar tímum. Við lifum nefnilega umbrotatíma. Gömul form eru að leysast upp og taka á sig nýja mynd. Mig langar í upphafi að staðnæmast við þrjá þætti þar sem gamalgróin landamæri eru að riðlast. Þessir þættir eru...
17. Nóvember 2006

...Samhengi hlutanna er að í vor samþykkti stjórnarmeirihlutinn á Alþingi að hlutafélagavæða flugvelli landsins og sjálfa flugumferðarstjórnina. Þetta var eins og fyrri daginn einkavæðing á einokunarstarfsemi og eins galin ráðstöfun og hugsast gat. Allt var ófrágengið við starfsmenn áður en þessi ákvörðun var tekin, þar á meðal voru ýmsir endar óhnýttir varðandi lífeyrismálin. En það gat varla orðið vandamál að mati ríkisstjórnar og ráðherra
. Ef þið ekki hagið ykkur eins og okkur líkar þá getið þið étið það sem úti frýs. Við höfum öll ráð í hendi okkar. Ekki verður beinlínis sagt að þetta sé tónn sátta. En svona geta menn talað í einokunarbransanum. En núverandi ástand byggir einnig á einokun kann einhver að segja. Mikið rétt, en því er til að svara að...
17. Nóvember 2006
Birtist í Morgunblaðinu 16.11.06.
...Ekki ætlast ég til þess að Björgólfur Guðmundsson sé mér sammála um þessi grundvallaratriði. Ekki heldur hitt að það eigi að flokkast undir samfélagslega ábyrgð að eigendur og stjórnendur fyrirtækja taki ekki meira en góðu hófi gegnir í sinn vasa af rekstrarfé. En spurning er hins vegar hvort við gætum ekki orðið sammála um hitt, að markaðsfyrirtæki eigi fyrst og fremst að skila vöru á góðu verði. Eða til hvers var leikurinn annars gerður? Að færa völdin til í samfélaginu? Mér þótti verðlagsþátturinn gleymast í ...
16. Nóvember 2006
Okkur er uppálagt að sýna góðvild og fyrirgefa þeim sem gert hafa á okkar hlut. Okkur er sagt að það sé heilbrigt að menn fái uppreist æru, jafnvel þótt eftir brautum klíkunnar sé farið. Okkur er kennt í æsku að best sé að bjóða vinstri vangann þeim sem hefur löðrungað okkur á þann hægri. Fyrirgefningin er þannig athöfn heiðarleikans og hún gerir þá kröfu að við horfum á verk manna, metum þau og reynum að trúa því að brotamaðurinn muni aldrei framar brjóta af sér. En okkur er hvergi bannað að efast...:
Ég fyrirgef með ást og yl
öllum sem ég þekki
en þegar allt ég tíni til,
þá treysti ég þeim ekki.
16. Nóvember 2006
Hvað finnst þér um að embættismenn í Stjórnarráðinu eru teknir við því furðulega hlutverki að selja hvalket til Japan eins og fram hefur komið í fréttum? Mér kom þetta mjög á óvart og eðlilega er þetta bæði vont fordæmi og afar slæmt afspurnar. Hélt að hlutverk embættismanna á þeim bæ væri annað mikilvægara en að setja sig í stöðu Kaupa-Héðins. Á heimasíðu Félags leiðsögumanna
http://www.touristguide.is er sagt frá fundi félagsmanna við Ásbjörn Björgvinsson hjá Hvalasafninu á Húsavík. Þar kom margt fróðlegt fram um...
Guðjón Jensson,
Mosfellsbæ15. Nóvember 2006
...Mér fannst hins vegar gott hjá þér að rétta kúrsinn varðandi mikilvægi skatttekna frá bankageiranum einsog þú gerðir í grein þinni í Fréttablaðinu síðastliðinn laugardag. Þar hafði mér fundist þú kominn út á grátt svæði og létti þegar þú skýrðir málið nánar. Ég tek heilshugar undir með þér að slagurinn snýst um hvers konar þjóðfélag við viljum og hvort þotuliðið eigi að geta stillt okkur hinum upp við vegg og umturnað hér öllu sér í hag. Sigurður Einarsson hjá KB- banka sem fer fyrir þotuliðnu, skildi nákvæmlega hvert þú varst að fara og sagði réttilega í Kastljósviðtali að ...
Haffi
15. Nóvember 2006
..."Ofurgróðinn" er einfaldlega hlutfall af eigin fé bankans, því fé sem í honum er bundið, og er nauðsynlegur ef bankinn á að vera heilbrigður og gegna hlutverki sínu í hagkerfinu. Svo ég komi aftur á byrjunarreit, þá þýðir ekki í nútímasamfélagi að tala í upphrópunum og láta eins og einföldustu hagfræðilögmál gildi ekki. Þá eru menn í reynd að segja að þeir vilji fara yfir í Sovétkerfi með fullkomlega miðstýrðu hagkerfi án tengingar við framboð og eftirspurn. Ef það er tilfellið er betra að segja það hreint út.
Vilhjálmur
15. Nóvember 2006
Menn hafa nokkuð velt því fyrir sér hvers vegna sendiherra Ísraels vildi hitta að máli fulltrúa allra annarra stjórnmálaflokka en VG, til að skýra hin "tæknilegu mistök" í Ben Hanun á Gaza þar sem 18 óbreyttir borgarar voru myrtir í síðustu viku....Gæti verið að sendiherra Ísraels hafi fengið það veganesti að heiman fyrir Íslandsheimsókn sína að gæta þess að eiga sem minnst samneyti við fulltrúa stjórnmálaflokks sem sendi frá sér orðsendingu af þessu tagi?...
14. Nóvember 2006
...Ef þingflokkur VG væri helmingi fjölmennari en nú er eins og skoðanakannanir að undanförnu hafa sýnt, væri staðan heldur betur bærilegri en hún hefur verið undanfarin ár. Þið hafið staðið ykkur með ólíkindum vel og fengið ótrúlega miklu áorkað en það er ekki leggjandi á ykkar fámennu sveit að standa ein undir þessu mikla álagi til frambúðar. Nú er að efla VG og fjölga á þingi. Fleiri Álfheiðar og hennar líka í hópinn...
Sjöfn
14. Nóvember 2006

...Enda þótt
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra tæki skýrt fram að hrannvígið í Beit Hanun í síðustu viku væri með öllu óafsakanlegt þá þurfti þessi formúlering að fylgja með. Gerir utanríkisráðherra Íslands sér ekki grein fyrir því að hún er að ávarpa fulltrúa hernámsþjóðar sem hefur fótum troðið mannréttindi og vanvirt samþykktir Sameinuðu þjóðanna um áratugaskeið. Og nú þegar við mótmælum hryllilegum morðum á saklausum börnum þá er hvorki staður né stund til að árétta að Íslendingar telji að Ísraelsríki hafi rétt til sjálfsvarnar! Hvenær skyldi koma að því að Íslendingar fylgi sjálfstæðri utanríkisstefnu og hætti að...
14. Nóvember 2006
Úr hverju er þessi þjóð búin til? Á sama tíma og ríksstjórnin talar um að lækka skatta stórfyrirtækja niður í 10% er verið að bjóða öldruðum smá mola með stig lækkun á skerðingu ellilífeyris sem taka á gildi í áföngum yfir mörg ár... Fólk sem ekki hefur efni á lyfjunum sínum, sérfræði læknisþjónustu eða sjúkraþjálfun. Landinn er orðinn svo þraut þjálfaður í að láta beygja sig og ...
Guðrún Hreinsdóttir
13. Nóvember 2006

Á miðvikudagsmorgun klukkan 8:15 er efnt til morgunverðarfundar á
Grand Hótel í Reykjavík undir fyrirsögninni:
EVRÓPUSAMVINNAN OG LÝÐRÆÐIÐ. Það er
Evrópufræðasetrið að Bifröst sem stendur að fundinum í samvinnu við
BSRB, ASÍ, Samtök atrvinnulífsins og
Samtök iðnaðarins.
Marius Vahl sérfræðingur um málefni EFTA ríkjanna hjá CEPS stofnuninni (Center for European Policy Studies) í Brussel flytur erindi á fundinum sem hann nefnir:
Double democratic deficit; Influence of the EEA on democracy in Iceland and Norway.
Af þessum titli sýnist mér að megi ráða að fyrirlesari telji að við séum í tvöföldum mínus hvað lýðræðið snertir með hlutdeild okkar í Hinu evrópska efnahagssvæði. Hvað hann á við með því að tala um tvöfaldan mínus á eftir að koma í ljós – hvort hann telur að það ...
13. Nóvember 2006
...Við eigum að fagna því fólki sem vill raunverulega koma til okkar kalda lands og taka þátt í okkar samfélagi. Við eigum að gera það sem hægt er að kenna því okkar tungu, okkar siði og viðhorf. Við þurfum ekki að samþykkja öll viðhorf og skoðanir þessara nýju heimilismanna. Þeir þurfa líka að taka tillit til okkar, þeir eru að ganga ínní samfélag okkar, ganga undir okkar gildi, okkar trúbrögð og siði. Þeir sem ekki geta það munu eflaust fara burt og við því er ekkert að segja. Um aldir hefur komið hingað fólk frá öðrum löndum sem hefur auðgað okka rmenningu. Það sama er að gerast núna, kannski í meira mæli en fyrr, en við eigum að hafa styrk að takast á við það ...Íslendingar ásamt mörgum fleiri þjóðum fluttu í stórum stíl til Vesturheims á þarsíðustu öld. Við héldum okkar siðum en féllum að fulllu inní það þjóðfélagt sem við komum til. Það sama viljum við frá þeim sem ætla að búa hjá okkur til framtíðar. Þeir samþykki okkar menningu, við njótum góðst af þeirra menningju, það sem á milli ber verðum við að ræða hispurslaust og vandamál eru til þess að leysa...
13. Nóvember 2006
...Ég er fullkomlega sammála afstöðu þinni sem kemur fram í pistlunum “HVERN ER VERIÐ AÐ HAFA AÐ FÍFLI? “ og “BANKARNIR RÍFI SIG EKKI FRÁ SAMFÉLAGINU “ á vefsíðunni þinni! Mér finnst þó að það hefði mátt benda á að enda þótt “hlutafélagsformið”, geti verið ágætt þar sem það á við og er heiðarlega rekið, hafi mönnum engu að síður tekist að spilla því og misnota eins og önnur efnahags- og þjóðfélagsúrræði. Það á við um þetta mannanna verk eins og mörg önnur, jafnvel sjálft lýðræðið, að því má snúa upp í andhverfu sína. Auðmenn og fjármálaklíkur kaupa sér það hlutfall eigna hlutafélagsins sem ...
Úlfljótur
12. Nóvember 2006
Birtist í Fréttablaðinu 11.11.06
...Það er vissulega rétt að það munar miklu um alla þá milljarða sem koma frá bankakerfinu í formi skatta og sú gagnrýni sem ég hef fengið fyrir að gera lítið úr þessum tekjum hins opinbera er réttmæt því um þessa peninga munar svo sannarlega í fjármögnun velferðarsamfélagsins. Spurningin er hins vegar um hinn félagslega tilkostnað, hina samfélagslegu fórn; hversu langt við viljum halda með samfélag okkar inn á markaðstorgið? Á Reagan-tímanum í Bandaríkjunum var talað um trickle-down economics, brauðmolahagfræði. Hún byggði á því að létta álögum af efnafólki svo það gæti bakað sín stóru brauð, almenningur myndi fyrr eða síðar njóta góðs af í formi molanna sem hrytu af borðum auðkýfinganna. Ekki varð sú raunin. Brauðmolastefnan jók misrétti í bandarísku þjóðfélagi til muna. Að lokum, nokkur orð um útrásina...
12. Nóvember 2006
... Í þáttinn var Guðfríði Lilju greinilega boðið vegna þeirrar ákvörðunar hennar að gefa kost á sér á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í komandi prófkjöri á höfuðborgarsvæðinu. Ég sannfærðist þá um að þau orð Hrafns Jökulssonar á heimasíðu hans á þá leið að með henni bættist VG mikill liðsstyrkur, ættu við rök að styðjast, sbr...
Skákkona í VG
11. Nóvember 2006
...Tek heilshugar undir sjónarmið þín, viðvíkjandi gróðahyggju og aukna ásælni svokallaðra útrásarmanna á kostnað íslenzkrar þjóðfélagsgerðar, og sem jafnframt skreyta sig, og sín fyrirtæki með útlendum orða- og nafnaskrípum. Réttast væri, að þjóðnýta þessar 3, af 4 stoðum bankakerfisins. Þarf að fara að draga niður í þessu sjálfumglaða þotuliði, sem braskar með þjóðarfé, jafnt erlendis sem innanlands.
Eru ekki nægar nauðsynjar fyrir þessa fjármuni hér heima fyrir ? Samgöngukerfi - heilbrigðiskerfi t.d. Nóg komið af...
Óskar Helgi Helgason
10. Nóvember 2006
Enda þótt Jón Magnússon lögmaður og Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður séu ekki endilega heppilegustu mennirnir til að hefja umræður um „útlendingavandamálin”, vegna þess að óneitanlega örlar á óæskilegri þjóðrembu hjá þeim, þá er alveg ástæðulaust fyrir „virta” stjórnmálamenn” eins og Steinunni Valdísi óskarsdóttur, að fara á límingunum þótt þeir taki til máls um efnið. Það er að minnsta kosti alveg á ystu mörkum að kalla mennina rasista þótt þeir kunni að komast óheppilega að orði. Hvert mannsbarn veit að undanfarin misseri hafa mörgþusund útlendingar komið hingað til lands í atvinnuleit. Sumir halda því meira að segja fram að þenslan og allt það sé þeim að kenna, þótt hver skynug manneskja hljóti að sjá að eftir þessu vinnuafli hefur verið kallað til þess að koma því í verk sem hefur skapað þensluna...
10. Nóvember 2006
Birtist í Morgunblaðinu 09.11.06.
...Að þessu leyti hefur hlutafélagaformið auðveldað kaup og sölu fyrirtækja og þannig gert eignarhaldið sveigjanlegra. Annað er, að með hlutafélagaforminu hefur aðkoma eigenda að rekstrinum fengið ákjósanlegan farveg og eru hluthafafundir til marks um hvernig eigendur, stórir og smáir, geta veitt aðhald með því að pund þeirra sé vel ávaxtað í fyrirtækinu. Með skírskotun m.a. til þessa get ég heilshugar tekið undir að hlutafélagaformið er gott og hefur sannað sig. Ef hins vegar um er að ræða stofnun sem ekki stendur til að selja og ef um það er að ræða að hlutabréfið verður aðeins eitt og í forsjá eins ráðherra, leyfi ég mér að spyrja hvort hlutafélagaformið sé heppilegt. Þetta stendur til að gera með Ríkisútvarpið nái frumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga...
9. Nóvember 2006
... Þú vilt fórna bönkunum úr landi og þar með taka atvinnuna af fleiri þúsundum manna sem vinna hjá bönkunum. Væri það virkilega gott fyrir efnahaginn og þá sem hafa lægri tekjur og þurfa á ýmissri aðstoð að halda frá ríkinu, ef bankarnir færu úr landi? Það eru ekki bara 12 milljarðar af skatti sem færi, hvað með tekjuskattinn og gjöldin sem allir starfsmennirnir borga. Ekki heldur gleyma því að ... "Jafnaðarsamfélag" er náttúrulega ekkert annað en kommúnismi, og flestir vita að það gengur hreinlega ekki upp, hefur þú komið til Norður ...
Davíð Stefánsson
8. Nóvember 2006
Birtist í Morgunblaðinu 7.11.2006
Nokkrir listamenn hafa tekið undir með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og Páli Magnússyni útvarpsstjóra um að nauðsyn beri til að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Þeir telja að það geri stjórnun stofnunarinnar sveigjanlegri og megi með því móti nýta fjármuni hennar betur. Þeir sem talað hafa þessu máli telja sumir hverjir einnig vel koma til greina að Ríkisútvarpið dragi sig út af auglýsingamarkaði. Allt á að vera hægt eftir að RÚV er orðið hlutafélag...
7. Nóvember 2006
...Sannast sagna þóttu mér yfirlýsingar Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns Frjálslyndra, fara yfir strikið og báru þess vott að hann vildi gera út á þetta málefni í kosningum. Árásir og gagnrýni á alla aðra stjórnmálaflokka á Alþingi - þ.e. alla aðra en hans eigin flokk - báru þessu vott. Auðvitað er hér á ferðinni mál sem taka þarf á af yfirvegun og með víðtækri sátt og einingu í þjóðfélaginu. Áhyggjur Magnúsar Þórs eru ekki nýjar af nálinni. Þú gerðir þetta sérstaklega að umræðuefni á nýafstöðnu þingi BSRB, Ögmundur, og fannst mér áherslur þínar þar hárréttar. Þær hafa verið til umræðu mikið á netinu að undanförnu og fannst mér Guðmundur Magnússon, blaðamaður og rithöfundur hitta...
Grímur
6. Nóvember 2006
...Það eru hinsvegar söfnun eigna og eignatekjur manna og sem jafnvel ekki er greiddur eðlilegur skattur af sem mér blöskrar. En þeir vinna ekki endilega í bönkum. Það er annað mál. Ég held og er reyndar viss um að láglaunastefnan og samfélagsbreytingin gegnum innflutning á erlendu vinnuafli sem hagstjórnartæki stjórnvalda er miklu alvarlegra mál fyrir velferð og jöfnun tekna í landinu en há laun toppanna í bönkunum - hversu siðlaus þau annars kunna að vera. Haldi fram sem horfir getur verið styttra í en margan hyggur að þeir sem starfa sem verkfræðingar, háskólakennarar, læknar og bankamenn hér á landi verði ótalandi á íslensku einmitt í nafni "jafnlaunastefnu" stjórnvalda og þannig hugsandi fyrirtækja. Ekki er það þróun sem við...
JB
6. Nóvember 2006
...Mér finnst einmitt athyglisvert að þú skulir ræða hversu miklu þurfi að fórna til að "losna" við nokkra stráka og stelpur í silkigöllum. Nú er það svo að bankarnir eru nú þegar búnir að borga 16,7 ma.kr. fyrstu 9 mánuðí ársins en ekki 11 (samkvæmt ársreikningum) auk þeirra skatttekna sem laungreiðslur "þotuliðsins" skila og annara greiðsla og framlaga banka til samfélagins. Til að setja þetta í samhengi má benda á að fyrir þessa upphæð má til dæmis...
Pétur
5. Nóvember 2006
Hvers vegna talar þú svona niðrandi um þá aðila sem vinna hjá bönkunum og hafa komið sér vel áfram í grein þinni 1.11.06? Mér finnst skrif þín ekki hæfa stjórnmálamanni sem situr á alþingi sem málsvari þjóðarinnar og óska eftir að þú endurskoðir ummælin. Að lokum...
Björgvin
5. Nóvember 2006

...En stenst það að ekki hefði orðið af Kárahnjúkavirkjun miðað við þá afstöðu sem nú er uppi með þjóðinni. Á það er til einn mælikvarði og hann er hvort stjórnvöld muni komast upp með að eyðileggja Jökulsárnar í Skagafirði. Það er mælikvarðinn. Nú þarf að blása til sóknarbaráttu gegn stóriðjusinnum sem sýnt hafa með verkum sínum að þeir eira engu þegar stórðiðjan er annars vegar. Það er gott til þess að vita að til er fjöldinn allur af skeleggu baráttufólki sem unnir sér engrar hvíldar í þessum slag. Eitt aðdáunarvert dæmi þar um er ...
4. Nóvember 2006
...Norður í Atlantshafi býr fámenn þjóð á lítilli eyju sem talin er ein mesta gersemi jarðarinnar vegna hreinni auðlinda til láðs og lagar en önnur þjóðríki. Umrædd skýrsla um ástand lífríkis jarðarbúa bar í sér frétt sem hvergi hefur sést fyrr. Golfstraumurinn sem er grunnforsenda alls lífs á þessari eyju hafði nýlega stöðvast í einhverja daga. Líklega á sama tíma og stjórnvöld okkar voru að hugleiða nýjan samning um orkusölu til mengandi stóriðju. Hvorki ríkisstjórn né stjórnarandstaða þessarar þjóðar sér ástæðu til að boða til fundar á Alþingi og ræða þetta smámál og móta tillögur um viðbrögð. Bág er þessi ríkisstjórn en snautlegri er þó stjórnarandstaðan...
Árni Gunnarsson frá Reykjum
2. Nóvember 2006
Birtist í Morgunblaðinu 1.11. 2006
Umræðan um hleranir á Íslandi á kaldastríðstímanum er fróðleg og áhugaverð fyrir margra hluta sakir. Þannig er komið í ljós að símar starfandi stjórnmálamanna voru hleraðir m.a. í tengslum við Þorskastríðin og símar forystumanna í verkalýðshreyfingunni voru hleraðir í tengslum við vinnudeilur! Það er ekki að undra að þeir sem skipuðu sér í flokk með þeim sem sátu handan hlerunartækjanna gerist nú sakbitnir og rói sumir lífróður til að finna sögulega réttlætingu fyrir þessum mannréttindabrotum.
1. Nóvember 2006
...Eru fjölmiðlarnir, stjórnmálamenn og almenningur staurblindir Ögmundur? Af hverju eru rýrar skattgreiðslur af ofsagróða ekki fréttaefni? Hvernig má það vera að afkomuupplýsingar banka og skattgreiðslur eru lesnar upp eins og veðurfréttir án frekari umræðu og gagnrýni? Ég hef heyrt menn segja að ef þrengt verður að bönkunum þá fari þeir úr landi. Starfsemi þeirra sé alþjóðleg og mikilvægt að halda fyrirtækjunum hér. Ég vildi snúa þessu við og spyrja: Höfum við efni á þessum dýru drengjum? Er siðferðilega rétt að búa bönkum skattaskjól eins og tölurnar bera með sér? Er ekki betra að láta þetta lið sigla sinn sjó og starfa í útlöndum? Slyppum við þá ekki við að leggja lóð okkar á vogarskál óréttlætisins sem við gerum nú með því að versla við bankana? Legg fyrir þig dæmi Ögmundur, sem mætti nota á samræmdum prófum í framhaldinu...
Ólína
1. Nóvember 2006

...Sú hugsun sem skrif Ólínu vekja er þessi: Með einkavæðingunni, gróðahyggjunni og braskvæðingunni hefur íslenskt samfélag breyst – eða öllu heldur, því hefur verið breytt. Eignir samfélagsins hafa verið settar í hendur nokkurra einstaklinga, sem makað hafa krókinn. Misskipting og ranglæti þrífst og breiðir úr sér sem aldrei fyrr. Spurningin er þá eftirfarandi: Er jafnaðarsamfélaginu fórnandi fyrir 12 milljarða og nokkra stráka og stelpur í silkigöllum; þotuliðið? Eða eigum við að snúa spurningunni við: Er þotuliðinu fórnandi fyrir meiri jöfnuð og félagslegt réttlæti? Mitt svar er...
31. Október 2006

..Þetta er sver yfirlýsing. Er það virkilega óeðlilegt að kjörnir fulltrúar almennings hafi skoðanir á þessari almannaþjónustu og afskipti ef því er að skipta? Svertir það ímynd fyrirtækisins? Hvað eru menn að fara? Í úttektarskýrslunni eru rifjaðar upp vangaveltur úr fimm ára gamalli skýrslu þáverandi stjórnarmeirihluta í Reykjavík, sem BSRB gagnrýndi harðlega á sínum tíma. Þar segir m.a.:
“ Skoða skal markvisst hvort hagkvæmt sé að auka útboð og lækka með því einingarkostnað.” Bíðum nú við. Nákvæmlega þetta hefur verið rækilega rannsakað og hjá BSRB höfum við fylgst með því hvernig
“einingarkostnaðurinn” hefur verið lækkaður í ýmsum grannríkjum okkar með því að fækka starfsmönnum og rýra kjör þeirra með tilstilli útboða. Af hálfu...
31. Október 2006
Lærið þið aldrei neitt, þið vinstri menn? Ekki einu sinni af reynslunni? Og svo er mótsögnin í umræðum ykkar og rökum brosleg. Í einu orði kvartið þið yfir skattahækkunum og í öðru yfir skattalækkunum! Þið virðist ekki skilja enn að því minna sem hið opinbera hrifsar til sín af fjármagni sem í umferð er því betur vinnur fjármagnið í þjóðfélaginu...
Gunnar Th. Gunnarsson
30. Október 2006
...Almenningur er á móti því að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. Engan hef ég hitt sem er sáttur við þá gjörð. Nema nokkra verktaka, kvikmyndaframleiðanda og músíkanta, sem ég sé skrifa hástemmdar greinar um hve hamingjusamir þeir séu yfir þessu frumvarpi. Eitthvað fara þessi skrif viðskiptavina RÚV fyrir brjóstið á mér. Kannski á að skoða þetta sem fyrirhyggju í viðskiptum. Ekki kann ég að meta hana. Mér finnst meira að segja lítið til hennar koma.
Sunna Sara
29. Október 2006
Hvers vegna tapar maður í prófkjöri Íhaldsins sem ber höfuð og herðar yfir mótframbjóðendur sína hvað varðar vitsmuni og atgervi? Það gerir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sem ekki nær öðru sæti eins og hann vildi en hafnar í því þriðja sem hann vildi ekki. Björn hefur margt til að bera og ótvíræða kosti umfram mótframbjóðendur sína, en samt ...
Haffi
27. Október 2006
Ég þakka þér svar við spurningu minni um Samvinnutryggingar
(hér). Ég hefði átt að vita að þar leyndist Finnur Ingólfsson. En hvað um það, ekki amalegt að vinna hjá ekki fyrirtæki á ofur launum. Sjá frétt af ruv.is .Hver er réttur okkar viðskiptavina Samvinnutrygginga í samvinnufélaginu? Hvað borgaði þetta fyrirtæki í kosningasjóð ...
Fyrrverandi viðskiptavinur Samvinnutrygginga. 27. Október 2006

...Forstjórinn sagði að stofnunin hefði látið
gera kerfisbundna athugun á því hjá íslenskum fyrirtækjum hvort þau hefðu eftirlit með internet- og tölvupóstnotkun starfsmanna og hvort þau notuðu eftirlitsmyndavélar og ökusírita til að fylgjast með akstri starfsfólks á ökutækjum í eigu fyrirtækisins. Í könnuninni var spurt hvort reglur væru til um vöktun og framkvæmd eftirlitsins og hvort starfsfólk hefði fengið fræðslu um eftirlitið og hvort það hefði með einhverjum hætti samþykkt eftirlitið og hversu lengi gögn sem söfnuðust við eftirlitið væru geymd. Í ljós kom ...
Í ljósi þess sem nú hefur komið fram frá forstjóra Persónuverndar er ástæða til að hefja á loft kröfuna um útfærslu mannhelginnar...25. Október 2006

Setningarræða 41. þings BSRB: Kjörorð þingsins er:
Eflum almannaþjónustuna – eflum lýðræðið.
Hvers vegna þetta kjörorð? Innan BSRB – starfar launafólk sem á það sammerkt að vinna við þá atvinnustarfsemi sem við höfum kallað almannaþjónustu – þar er um að ræða grunnþjónustu samfélagsins – þjónustu sem ekkert samfélag getur án verið, hvort sem það er á sviði heilbrigðismála og menntamála eða löggæslu, vinnueftirlits og rannsókna, póstþjónustu eða annarra þátta sem nútímaþjóðfélag byggir á.
25. Október 2006
Dóttir mín hringdi í mig um daginn frá Kaupmannahöfn þar sem hún vinnur hjá virðulegu stórfyrirtæki og spurði mig hvort ekki ættu allir að vera í verkalýðsfélagi sem eru að vinna hjá öðrum. Ég svaraði því til að það væri víst ekki lagaleg skylda til þess. Ástæða þess að hún spurði var að henni fannst eitthvað skrýtið varðandi útfærslu á launum og vinnutíma og þess vegna fór hún að leita svara og hélt að það væri kannski einhver trúnaðarmaður á staðnum. Þá var henni sagt að starfsmenn fyrirtækisins væru ekki í verkalýðsfélagi en hún gæti alltaf leitað til starfsmannastjórans. „Hef ég þá engan málssvara?“ spurði hún. Jú, starfsmannastjórinn var víst hennar málssvari. Þetta fannst henni eitthvað skrýtið. Og hvernig ráðast laun og kjör? Jú, fyrirtækið ákveður þau – og svo eru einhverjir eintaklingssamningar. Jú, jú, hún hefur þokkaleg kjör, en eitthvað fannst henni samt ótryggt við þetta.
25. Október 2006
...Í úrskurði þessum er fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins fært á silfurfati á 3ja hundrað milljónir króna í bætur fyrir eignanám á 3,6 ha spildu við Rauðavatn. Rökstuðningur nefndarinnar er sérstaklega allra athygli verður: hver fermetri í eigu fyrrum framkv.stj. er metinn á verði og lagt til grundvallar hæsta fermetraverð sem greitt hefur verið fyrir á höfuðborgarsvæðinu. Ljóst er að verulegur hluti þessarar einna dýrustu lóðar Íslandssögunnar verður einungis helgunarsvæði samgöngumannvirkja, vega og hringtorgs! Þar verður sennilega lítið byggt, kannski ekki nokkur skapaður hlutur. Þá er gróður á spildunni metinn á 6.4 milljónir eða meira en góð frístundalóð kostar! Dýr myndi allur gróðurinn í Kárahnjúkadölum verða metinn...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ
24. Október 2006

Á morgun, miðvikudag, verður 41. þing BSRB sett á Grand Hótel í Reykjavík undir kjörorðinu
EFLUM ALMANNAÞJÓNUSTUNA – EFLUM LÝÐRÆÐIÐ. Með þessu leggja samtökin áherslu á mikilvægi almannaþjónustunnar, ekki aðeins sem grundvöll velferðarsamfélagsins heldur einnig lýðræðis í landinu. Undanfarin ár hafa einkennst af mikilli markaðs- og einkavæðingu, ekki aðeins hér á landi heldur víðs vegar um okkar heimshluta. Hér á landi hefur fjármálakerfið, símaþjónustan og ýmis önnur starfsemi þegar verið tekin úr höndum hins opinbera að öllu leyti og ýmsir geirar heilbrigðisþjónustunnar lúta í vaxandi mæli markaðslögmálum. Með því að færa undirstöðuþætti almannaþjónustunnar undan handarjaðri almennings eru völdin færð til nýrra eigenda, handhafa fjármagnsins. Þess vegna dregur einkavæðingin úr almannaáhrifum...
23. Október 2006
...Ég vildi benda þér á blekkingarfrumvarp Samfylkingarinnar, sem nú er í bígerð. Það ætlar að rætast sem ég óttaðist: Boðað frumvarp Jóhönnu og Margrétar um skerðingu á eftirlaunum "æðstu manna"er fyrirlitleg blekking...Andstaða þjóðarinnar við eftirlaunalögin byggðist ekki á því að fyrrverandi ráðherrar gætu verið í fullu starfi og þegið jafnframt eftirlaun. Þann agnúa afhjúpuðu fjölmiðlar mánuðum eftir að lögin voru samþykkt. Andstaðan byggðist á forréttindahyggjunni sem grasseraði í frumvarpinu, eins og þú veist... Ekkert hálfkák, enga uppgerð, engar blekkingar. Hér er uppkast að frumvarpi...
Hjörtur Hjartarson
23. Október 2006
...ÖBÍ berst fyrir félagsmenn sína og gerir það vel. Það sama á við um forsvarsmenn lífeyrissjóðanna. Ég þekki afstöðu fulltrúa verkalýðsfélaganna mæta vel. Þeim, engu síður en forsvarsmönnum öryrkja, er umhugað um að finna réttlátar lausnir.
Nú ríður á að nota tímann vel, hefja sig upp úr skotgröfum og freista þess að ná samkomulagi um framhaldið. Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna og öryrkja eiga að setjast yfir málið nú þegar, svo og löggjafinn sem ber mesta ábyrgð á bágri stöðu öryrkja á Íslandi í dag. Að þessu sögðu vil ég þó leggja áherslu á að næstu mánuðir eiga ekki að vera tími ásakana heldur lausna...
22. Október 2006

... Jafnframt þótti augljóslega nauðsynlegt að reyna að drepa á dreif gagnrýni sem fram hefur komið á tregðu Sjálfstæðisflokksins við að upplýsa um njósnastarfsemi og mannréttindabrot sem framin voru hér á landi á Kaldastríðstímanum.
Allt gekk eftir: Boðað var til fundar í Valhöll. Fjölmiðlar með RÚV í broddi fylkingar mættu og síðan var messað um
eldgömlu málin og hina
lúalegu aðför að Birni Bjarnasyni! Allt síðan kórónað með frásögn fréttastofu Sjónvarps sem sagði okkur að eins og glögglega mætti sjá á fundinum væri allt í lukkunnar velstandi á milli þeIrra Geirs og Björns. En er allt í lukkunnar velstandi á ...
22. Október 2006
Ég hef lesið greinar þínar um samskipti þeirra Jóns Baldvins, Steingríms Hermannssonar og Svavars Gestssonar af athygli. Ég er sammála þér að auðvitað áttu þeir tvímenningar að koma hreinna fram gagnvart Svavari. Mér finnst það sannast sagna aumt af þeim að geta ekki viðurkennt það og beðist afsökunar. Hitt ætla ég þó að sé rétt að hvorugur þeirra JBH né SH hafi trúað nokkru misjöfnu upp á SG varðandi Austanmenn. Það gerði þjóðin ekki heldur eins og þú reyndar segir. Í ljósi þessa þykir mér þú gera of mikið úr þessum landráðabrigslum. Þau voru aldrei sett fram nema þá af einstaka öfgamanni sem vildi sverta vinstri menn og halda Rússagrýlunni á lífi. Ástæðan fyrir því að Svavar varð fyrir skeytum nokkurra hægri öfgamanna var einfaldlega sú að hann var mjög öflugur talsmaður vinstri stefnu. Þess vegna var reynt að grafa undan honum og gera hann ótrúverðugan. Aldrei hef ég hins vegar ...
Samfylkingarmaður sem áður var í Alþýðubandalagi
21. Október 2006
...Ég er sammála þér og Sunnu Söru, hvað komu Roman Abromovits og hans líka til landsins snertir. Mér skilst að Roman Abromovits sé góðvinur Ólafs Ragnars og konu hans...Kemur hann með Bónus flugvél, eða í sinni eigin? Ögmundur, við eigum nóg af okkar eigin heimabökuðu þjófum sem eru ekkert betri miðað við fólksfjölda, og eftir er að afgreiða...
Úlfljótur
21. Október 2006

Jón Baldvin Hannibalsson skrifar pistil í Fréttablaðið í dag þar sem hann vísar því á bug að sér beri að biðja
Svavar Gestsson afsökunar eins og ég hafði farið fram á í grein í sama blaði. Af viðbrögðunum að dæma virðist Jón Baldvin vera blindur á það sem málið snýst um. Það snýst um siðferði í stjórnmálum og öndverðuna einnig: siðleysi. Kjarninn er eftirfarandi...Það getur verið að Jón Baldvin skilji ekki þessa mynd: Einhver - ekki Svavar Gestsson - heldur einhver er borinn þungum sökum og mannorð hans flekkað með ósæmilegum hætti árum saman. Þú veist að sakirnar eru upplognar en þú ferð samt ekki til að aðstoða þann mann sem er borinn sökunum.
...Eftir stendur að mannorð manna, sem um áratugaskeið hefur skipulega verið auri atað, hefur nú verið hreinsað. Það eru tíðindin sem máli skipta; ekki hitt hversu...
21. Október 2006
Birtist í Fréttablaðinu 20.10.06.
Þór Whitehead skrifar grein í Fréttablaðið í gær (miðvikudaginn 18. október) sem varð til þess að mig setti hljóðan. Fram kemur að samráðherrar Svavars Gestssonar í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, 1988-1991, óskuðu eftir því að kannað yrði hvort Svavar hefði gengið erinda austur-þýsku leyniþjónustunnar! Ráðherrarnir voru samkvæmt frásögn Þórs, forsætisráðherrann Steingrímur Hermannsson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og þáverandi formaður Alþýðuflokksins.
Þór Whitehead byggir frásögn sína á skriflegum heimildum Róberts Trausta Árnasonar sem á þessum tíma var vara-fastafulltrúi Íslands hjá NATÓ en hann var beðinn um að gangast fyrir um þessa eftirgrennslan. Það hafi hann að eigin sögn gert þótt hann hafi verið "tregur til verksins" því hann hafi ekki fengið að vita hvernig ráðherrarnir "myndu nota hugsanlegar upplýsingar". Hann hafi engu að síður sinnt þessari beiðni og leitað til vestur-þýsku leyniþjónustunnar og hinnar bandarísku. "Einkum vildi Jón Baldvin vita, hvort að Svavar Gestsson hefði verið í hópi erindreka STASI”, segir í frásögn Róberts Trausta. Þar kemur einnig fram að...
20. Október 2006
Ég las um það í Blaðinu að Roman Abromovits, Chelsea-eigandi, væri kominn til Íslands í opinberri heimsókn á vegum forsetaembættisins. Ef ég man rétt þá er var Abromovits einna afkastamestur í hópi þeirra manna sem stálu eignum rússnesku þjóðarinnar á einkavæðingartímanum í Rússlandi. Finnst þér rétt Ögmundur að bjóða stórþjófi í opinbera heimsókn til Íslands, jafnvel þótt Íslendingar geti hagnast á því? Mér finnst það ekki. Forsetaembættið á að...
Sunna Sara
19. Október 2006
...Ef markaðslögmálið á eingöngu að ráða eins og ráðherrann sagði í Kastjlósi og hvalveiðimenn fá að veiða hrefnur óheft inni í Faxaflóa, mun það þýða endalok hvalaskoðunar í flóanum. Hvalveiðimenn munu reyna að hámarka hagnaðinn og lágmarka kostnaðinn og veiða hrefnur hvar sem til þeirra næst. Það verður að friða Faxaflóann fyrir öllum hvalveiðum....Hafsúlan hvalaskoðun hefur gert út á hvalaskoðun síðan 1998. Í sumar vorum við með 14 starfsmenn, fyrirtækið er ekki rekið með tapi og fær enga styrki frá hinu opinbera í sinn rekstur. Hér fyrir neðan er bréf sem við fengum í júní á þessu ári og annað sem kom í morgun...
Einar Steinþórsson
19. Október 2006

... Nú hefur komið á daginn að eineltispólitíkin náði inn í Stjórnarráðið fyrir aðeins hálfum öðrum áratug. Róbert Trausti Árnason, sem beðinn var um að kanna hugsanleg tengsl Svavars Gestssonar við austur-þýsku leyniþjónustuna STASI, segist hafa verið
„tregur til verksins“ af því að hann hafi ekki fengið að vita hvernig ætti „
að nota hugsanlegar upplýsingar um mögulega íslenska erindreka STASI.“
Það er von að maðurinn spyrji og er verðugt viðfangsefni sagnfræðinga að skoða þetta í samhengi við pólitíska umræðu á þessum tíma...
18. Október 2006
...Vinstri hreyfingin grænt framboð greiddi atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun en Framsókn, Samfylking og Íhaldið greiddu atkvæði með Kárahnjúkavirkjun. Ég man ekki betur en að Frjálslyndi flokkurinn hafi líka greitt atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun alla vega var Ólafur F Magnússon sá sem talaði gegn þessari virkjun og...
Jón Þórarinsson
17. Október 2006
Á forsíðu Morgunblaðsins sl. sunnudag er greint frá því, að nú sé hart barist í prófkjörsslag Sjálfstæðisflokksins vegna þingkosninga að vori. Lengi vel voru það einkum lögfræðingar sem voru valdir á lista Sjálfstæðisflokksins en nú þurfa þeir sem hyggja að leggja fyrir sig þingmennsku að vera sæmilega loðnir um lófana til þess að geta gert hosur sínar grænar fyrir verðandi kjósendum. Mér finnst vera uggvænlegt að auðurinn sé sífellt að verða aðalatriðið en ekki hugsjónir og sannfæring fólks. Áður fyrr var...
Guðjón Jensson
16. Október 2006
...Það gengur algerlega fram af mér að menn skuli voga sér að fara erlendis og semja við erlent ríki fyrir hönd íslensku þjóðarinnar og undirrita, að sögn forsætisrráðherrans “nýjan varnarsamning” við Bandaríkin. Þessi samningaferð Geirs Haarde, Björns Bjarnasonar og Valgerðar Sverrisdóttur til að undirrita nýjan varnarsamning við Bandaríkin er gerð án umfjöllunar á háttvirtu Alþingi Lýðveldisins, án umræðu og samþykkis utanríkimálanefndar, og að mér skilst án leyfis forseta Íslands, sem skal vera allavega í samráði í samningsgerðum stjórnvalda við útlönd og verður að samþykkja þá, svo ég vísi aðeins til 21. greinar stjórnarskrárinnar.
Að umræddir ráðherrar skuli vera í tygjum við hina bandarísku FBI, sem er innanríkislögregla Bandaríkjanna, er...
Helgi
16. Október 2006

Fyrir fáeinum dögum fékk ég bréf frá Ólínu, sem vakti athygli á því hve lýsandi og táknræn frásögn Morgunblaðsins var síðastliðinn föstudag af vesturför þremenninganna, Geirs, Valgerðar og Björns. Ólína segir:
"Mogginn á það til að bregða sér í skemmtigallann og rífa sig upp úr gráu hversdagslegu farinu, sem einkennir hann enn, þótt tíminn hafi stungið þetta annars ágæta dagblað af. Fyrir okkur lesendur jafnast skemmtidagar Moggans á við að lesa ljóð, eða jafnvel frekar flókna glæpasögu, útlenda. Svona dagur var í dag. Bjartur, tær og spennandi. Síða tvö í Mogganum. Fyrst fréttin um að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður og efasemdir fyrrverandi samgönguráðherra um að það hafi verið svo. Síðan neðri fréttin á sömu síðu svo að segja í sama ramma: Samstarf á nýjum grunni fer vel af stað. Þarna standa þeir Bjarnason, Mueller og Haarde i höfuðstöðvum FBI, bandarísku ríkislögreglunnar sem Hoover gerði svo fræga, og þarna voru þeir samkvæmt yfirlýsingum forsætisráðherra vegna “plaggsins” sem valdhafar íslenskir og bandarískir settu stafina sína á daginn áður…" Í rauninni ætla ég ekki að gera annað að sinni en...
15. Október 2006
...Árin um og fyrir 1960 (ég var fyrst á verkfallsvöktum vorið 1961) rifjuðust upp þegar ég las grein Illuga. Það skyldi þó aldrei vera að „varaliðið” hafi ekki bara átt að vera til taks ef illa liti út fyrir valdhafana. Kannski það hafi líka fengið þjálfun í því að koma af stað róstum, sem gæfu yfirvöldunum tilefni til handtöku og málaferla, yfir fáum eða mörgum eftir atvikum. Þessi „stjórnlist” er þekkt um allan heim og hafa leyniþjónustur stórveldanna löngum haft flugumenn og „sérfræðinga” á sínum snærum til þess arna. Ég man ekki hvort við sem höfðum þetta hlutverk, að verja Tjarnargötu 20, vorum kölluð varnarlið verkalýðsins, en við vorum áreiðanlega síðustu leifarnar af því, og þustum stundum út úr húsinu til að gefa umsátursmönnum ótvírætt til kynna að þeir...
15. Október 2006
Mig langar til að þakka þér kærlega fyrir bréfið góða sem þú sendir mér og öðrum íbúum Snæfellsbæjar, varðandi aðför meirihluta Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Snæfellsbæjar, að starfsmönnum bæjarins. Það er nefnilega svo, að þessi ógeðfellda aðför, er ekki bara aðför að einum tilteknum starfsmanni íþróttahússins, heldur að öllum íbúum bæjarins. Yfirvöld Snæfellsbæjar eru með framgöngu sinni að segja: ef þið sitjið ekki og standið, talið og hugsið, eins og við viljum, skulið þið hafa verra af. Því miður sýnist mér að valdstjórnaræði...
Jóhannes Ragnarsson, Ólafsvík.
15. Október 2006

...Þetta mál á að verða okkur öllum umhugsunarefni. Það er greinilega verið að vekja upp gamlan draug sem verkalýðshreyfingin kvað niður á öldinni sem leið – með slæmum undantekningum þó – en þar er ég að vísa til þess þegar launafólk er látið gjalda skoðana sinna og sagt upp störfum ef þær falla ekki í kramið hjá atvinnurekendum. Nýlega var þremur gamalreyndum starfsmönnum sagt upp í álverinu í Straumsvík. Í ályktun sem fjölmennur fundur starfsmanna samþykkti segir að uppsagnirnar auki á óöryggi starfsmanna varðandi atvinnuöryggi og tjáningarfrelsi þeirra. Í máli...
13. Október 2006

...Um daginn birtust þau, menntamálaráðherrann og útvarpsstjórinn, á fréttamannafundi í samræmdu áróðursátaki með samning um að auka vægi íslenskunnar í dagskrá Sjónvarps. Þetta er prýðilegt en kemur hlutafélagavæðingu stofnunarinnar ekkert við. Það er hægur vandinn - ef vilji er á annað borð fyrir hendi - að gera svona samning á milli ríkis og ríkisstofnunar á sama hátt og Danmarks Radio hefur gert hliðstæðan samning við danska ríkið. Ekki er DR hlutafélag! Þetta eru blekkingar af verstu sort. Illt er að forsvarsmenn Ríkisútvarpsins skuli taka þátt í þessum áróðursbrögðum frjálshyggjunnar í ríkisstjórn. En forsvarsmenn RÚV ganga lengra. Nýlega var...
13. Október 2006
Mogginn á það til að bregða sér í skemmtigallann og rífa sig upp úr gráu hversdagslegu farinu, sem einkennir hann enn, þótt tíminn hafi stungið þetta annars ágæta dagblað af. Fyrir okkur lesendur jafnast skemmtidagar Moggans á við að lesa ljóð, eða jafnvel frekar flókna glæpasögu, útlenda. Svona dagur var í dag. Bjartur, tær og spennandi. Síða tvö í Mogganum. Fyrst fréttin um að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður og efasemdir fyrrverandi samgönguráðherra um að það hafi verið svo. Síðan neðri fréttin á sömu síðu svo að segja í sama ramma: Samstarf á nýjum grunni fer vel af stað. Þarna standa þeir Bjarnason, Mueller og Haarde i höfuðstöðvum FBI, bandarísku ríkislögreglunnar sem Hoover gerði svo fræga, og þarna voru þeir samkvæmt yfirlýsingum forsætisráðherra vegna “plaggsins” sem...
Ólína
12. Október 2006
Ég las umræðu þína og Gríms um lækkun matarskatts. Ég er svolítið ósammála ykkur báðum, en þó sammála á vissum sviðum. Jú auðvitað verður að hafa matarverð eins lágt og hægt er, en svo er einnig með húsnæði, rekstur á bifreið, verð á fatnaði og lærdómstækjum, sérstaklega fyrir börn, o.s.f.v., o.s.f.v.
Jafnframt því að lækka skatta á matvælum, ætti að hækka alla skatta á auðkýfingunum, til dæmis tekjuskatt og eignaskatt. Það mætti hækka óskattlagt kaup fólks og afnema algjörlega tekjuskatt á öldruðum upp að t.d. 200.000 kr. á mánuðu með skattfrjálsum tekjum. Látum ...
Helgi
11. Október 2006
Kosningar nálgast. Það liggur í loftinu og má merkja á ýmsu. Prófkjörsbarátta er hafin innan flokkanna og pólitíkin að taka á sig mynd kosningabaráttu. Augljósasta merki um hvað er framundan er, eins og fyrri daginn, að finna hjá Framsókn. Borðaklippingum og hvers kyns opnunum fjölgar jafnt og þétt hjá ráðherrum flokksins, allt eins og færustu hönnuðir og ímyndarfræðingar hefðu best getað hannað. Ekki veit ég með neinni vissu hvort kosningaráðgjafar og auglýsingasérfræðingar Framsóknar eru teknir til starfa en fyrir þá sem ekki muna, þá fékk auglýsingastofan sem matreiddi Framsókn ofan í kjósendur fyrir síðustu alþingiskosningar sérstök afreksverðlaun fyrir að ...
11. Október 2006
Ósköp er hún einhliða umræðan um lækkun matarskatta. Nánast allir virðast vera sammála um ágæti þessara aðgerða. Frá mínum bæjardyrum er þetta ekki eins einfalt mál og menn vilja vera láta. Í fyrsta lagi er það óumdeilt að því lægri skattar þeim mun betra fyrir neytandann þröngt skoðað. Ef þetta hins vegar leiðir til þess að neytandinn þurfi að greiða hærri gjöld annars staðar, t,d. á sjúkrahúsum, þá horfir málið öðru vísi við. Það vill nefnilega gleymast að skattalækkun þýðir tekjurýrnun hjá ríkissjóði og sveitarsjóðum! Þetta hefur nánast ekkert verið rætt í tengslum við fyrirhugaða lækkun á virðisaukaskatti á matvörur, nema þá að sagt hafi verið ...
Grímur
10. Október 2006
Sú var tíðin að ég tryggði mínar litlu eignir hjá Samvinnutryggingum. Skyndilega var ég orðinn viðskiptavinur VÍS við sameiningu Samvinnutrygginga og Brunabótafélag Íslands sem var í ríkiseign.
Hvað um það nú er Helgi nokkur Guðmundsson...
F yrrverandi viðskiptavinur Samvinnutrygginga.
9. Október 2006
... Í stefnuskrá VG er kafli um jafnrétti. Mig langar til að spyrja þig, sem formann Fjölskyldu- og styrktarsjóðs, hvort að það samræmist stefnu flokksins að greiða ekki körlum úr sjóðnum?
Haraldur Geir Eðvaldsson
8. Október 2006
...Eflaust eiga Rauðarármenn ekki annarra kosta völ en taka undir með Rússum af diplómatískum ástæðum. Vonandi eru þeir í hjarta sínu ekki rússnesku diplómatíunni sammála og vona ég að ekki verði ráðist í kostnaðarsamar öryggisaðgerðir vegna þessa. Sama kvöld og þessi atburður átti sér stað var sagt frá því að ráðist hafði verið á mann í miðbæ Reykjavíkur og honum misþyrmt herfilega. Maðurinn var stórslasaður. Talað var um fólskulega árás. Árásin lyktaði af ...
8. Október 2006
Húsvíkingar hefðu betur fylkt liði í baráttu gegn kvótakerfi sem rænt hefur samfélagið drúgri lífsbjörg og einnig leitað í margrómaða hugmyndaauðgi Þingeyinga um atvinnuuppbyggingu. Samfélagið hefur ekki staðið sem skyldi að byggðastefnu og þar með atvinnuuppbygingu á landsbyggðinni á hálfan annan áratug. Þín orð Ögmundur, spurning: vildir þú geta úthlutað kvóta? Og þá til hverra? þeirra sem ...
Pétur
7. Október 2006
Varðandi umræðuna um símahleranir og njósnir á árum Kalda stríðsins sem hafa orðið töluverðar á undanförnum vikum er spurning hvort af tvennu illu væri ekki hyggilegt að fremur væru sett skynsamleg lög um þessi mál en engin. Þar þarf að kveða skýrt á um það við hvaða skilyrði megi hlera síma og stunda njósnir og í hvaða tilgangi. Slíkar heimildir þurfa auðvitað að vera mjög þröngar og rökstyðja þyrfti þörfina hverju sinni. Eitt af skilyrðunum er, að öll gögn beri að varðveita og að þau...
Guðjón Jensson
7. Október 2006
...Öryggi þjóðarinnar verður best treyst með því að Ísland verði vettvangur sáttaumleitana án stuðnings við ofbeldi hvort sem er til sóknar eða varnar. Metnaður okkar á að liggja í því að fá stuðning alþjóðasamfélagsins til að reisa hér á Íslandi ráðstefnuhús yfir friðar-og öryggisviðræður; og jafnframt ætti þarna að vera mistöð vísindalegra rannsókna á tengingu loftslagsbreytinga og mengunarlosunar. Það er einnig brýnt að benda á það að sala vistvænnar orku er engin lausn á mengunarvanda. Framleiðsla á málmum undir þeim formerkjum er aðeins aukning við aðra framleiðslu en það er fyrst og fremst sóunin sem þarf að stöðva áður en gripið er til þess að bjóða vistvæna orku á verðlagi ...
7. Október 2006
Fréttablaðið hefur verið með ágætan fréttaflutning að undanförnu um þróun innan spítalakerfisins. Í föstudagsútgáfunni er að finna athyglisvert viðtal við
Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Hann segir svo komið að tilteknar aðgerðir séu ekki lengur framkvæmdar innan veggja spítalanna. Ýmsar sértækar aðgerðir, hnéuppskurðir og aðgerðir á öxlum, séu nær eingöngu framkvæmdar á einkastofum. Orðrétt hefur fréttamaður Fréttablaðsins eftir Jóhannesi:
"Það er ekki heppilegt að ákveðin þjónusta hverfi algjörlega út af spítölunum, eins og hefur gerst. Spítalinn er ...
Ég efast í sjálfu sér ekki um góðan vilja
Sivjar Friðleifsdóttur, heilbrigðisráðherra. En það má ráðherrann vita, að saman verða að fara orð og athafnir. Frumvarpið frá í vor er ávísun á frekari einkavæðingu, gagnstætt því sem Siv Freiðleifsdóttir boðar. Ljóst er að um frumvarpið munu rísa miklar deilur verði það lagt fram óbreytt.
6. Október 2006
Nú er herinn farinn - það er að segja líkamlega. Þessi her fer aldrei úr vitund þjóðarinnar - etv. sem betur fer. En þó er það einnig miður. Viðskilnaðurinn er í þeim anda sem til var stofnað í upphafi: Smánarlegur fyrir íslenska þjóð og íslenskt land. ...Ég rakst á - ég held ekki fyrir tilviljun - limru eftir Þorstein Valdimarsson. Hún er svona:
Það er svipað um hernámið hér
og helvítis rykið hjá mér:
Það seiglast að falla,
það svínar út alla -
og sést ekki fyrr en það fer.
Mér sýnist þetta nokkuð rétt - eða hvað?
Guðmundur Brynjólfsson
6. Október 2006

...Í gær var samþykkt í sveitarstjórn Skagafjarðar að virkjanir í báðum Jökulánum, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, skuli fara inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Þetta er stefnuyfirlýsing meirihluta sveitarfélagsins, sem er í höndum
Framsóknarflokks og
Samfylkingar, um að þessar virkjanir geti orðið að veruleika.
...Þess vegna mega menn nú ekki sofna á verðinum. Það verður að stöðva frekari virkjanir í þágu stóriðju í landinu og við verðum að koma í veg fyrir að stóriðjugráðugt fólk grandi öllum fegurstu náttúruperlum landsins.
Bjarni Jónsson, oddviti
Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði og félagar hans hafa um árabil staðið sig hetjulega í baráttunni gegn þessum áformum.
Þau hafa ein róið á móti straumnum. Nú þurfa þau að finna til samstöðunnar. Ég hvet alla til þess að ljá þeim lið og fjölmiðla hvet ég til þess að fylgjast grannt með gangi mála í Skagafirði. Það er ekki nóg að tala um Fagra Ísland...
5. Október 2006
... eigum við að kenna þeim um morðin og ofbeldið á saklausu fólki ásamt pyntingabúðum víðsvegar um heim ásamt flugi með ódæmda fangana í íslenskri flughelgi? ... Nei, Ögmundur, það gerum við ekki. Látum þá bara skammast sín ef þeir hafa einhvern manndóm til þess! Hugsandi fólk sér í gegnum málatilbúnað þeirra!
En minnumst ætíð með þakklæti, þeirra góðu Íslendinga sem börðust fyrir herlausu og sjálfstæðu Íslandi! Fyrir Íslandi án erlendrar hersetu!! Fyrir Frjálsri þjóð!!!
Helgi
4. Október 2006
...Líklegt er að þessi versnandi lánskjör bitni á viðskiptavinum bankanna innanlands því ekki geta þeir boðið viðskiptavinum sínum erlendis þessi lánskjör.
Af kauptíðindum bankanna má skilja að unnir hafi verið miklir varnarsigrar með þessari fjármögnun og eftirspurn eftir skuldabréfum þeirra hafi verið langt umfram framboð. Er það óeðlilegt í ljósi þess hvað almennt gerist á þessum markaði, er ekki ástæða til að halda að hægt sé að gera mun betur í þessum málum? Víst er að einkavæðing bankanna hefur ekki skilað okkur betri lánskjörum og þeir vísu menn sem nú í stafni standa hafa ekki staðið undir væntingum þrátt fyrir ...
Bjarni
3. Október 2006
Birtist í Morgunpósti VG 02.10.06.
Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er fjallað um þá sem tóku þátt í baráttu fyrir herlausu Íslandi, það fólk sem tók þátt í Keflavíkurgöngum til að leggja áherslu á sjónarmið sín eða skrifaði og talaði fyrir friði og gegn vígbúnaði.
Um þessa einstaklinga og hvað fyrir þeim vakti segir m.a. í Staksteinum...
Þetta eru kaldar kveðjur til Árna Björnssonar,Vigdísar Finnbogadóttur, Halldórs Laxness, Jakobínu Sigurðardóttur, Ragnars Stefánssonar, Jóhannesar úr Kötlum, Svövu Jakobsdóttur, Guðmundar Böðvarssonar, ... listamannanna, stjórnmálamannanna, launafólks og mannréttindasinna, allra þúsundanna sem tók þátt í baráttunni fyrir herlausu Íslandi, ýmist með þátttöku í Keflavíkurgöngum eða með öðrum hætti.
Ég hef aldrei verið gefinn fyrir beitingu meiðyrðalöggjafar ...
2. Október 2006
...Stórtíðindi dagsins voru svo yfirlýsingar stjórnarandstöðuflokkanna um að leggja í sameiningu fram mál sem snerta grundvallaratriði: Almannatryggingar, náttúruvernd, jafnréttismál, raforkumál og utanríkismál. Frá þessu var skýrt á sameiginlegum fréttamannafundi í svokölluðu "ríkisstjórnarherbergi" í þinghúsinu í dag.
Ef til vill var fundarstaðurinn táknrænn um það sem koma skal eftir þingkosningarnar í vor...Fái stjórnarandstaðan meirihluta eftir næstu kosningar hlýtur það að skoðast sem áskorun þjóðarinnar um að hún taki við landstjórninni. Að mínu mati eru verulegar líkur á því, að þegar að afloknum þingkosningum, 5. maí næstkomandi, hefjist stjórnarmyndunarviðræður núverandi stjórnarandstöðuflokka. Auðvitað er til í dæminu að ...
1. Október 2006
Mér finnst sjálfsögð sú krafa að Alþingi verði kallað saman áður en fyllt verði á Hálslón. Í fyrsta lagi til að ákveða hvort þörf sé á rannsókn á öllu ferlinu og í framhaldi hvort ekki eigi að fresta fyllingu lónsins á meðan rannsóknarnefnd Alþingis kanni málið. Saga málsins mun viðhalda þeim klofningi sem verður meðal þjóðarinnar ef af verður. Þetta er óafsakanlegt...
Ingvar
1. Október 2006
...Suður í Hafnarfirði er ALCAN með álver, sem er á góðri leið með að verða að skrýmsli inní bænum. Forsvarsmenn fyrirtækisins vilja endilega stækka verið og ekki lagast ástandið í skipulagsmálum bæjarins við það. Þeir hafa jafnframt látið að því liggja að þeir geti eins lokað verksmiðjunni eins og að reka hana í óbreyttri stærð. Hótanir kallaði Ögmundur það á sínum tíma. Kostaboð segi ég. Eins og sakir standa væri alveg upplagt að taka ALCAN-fólk á orðinu, semja við fyrirtækið um minnkun og síðan lokun álversins. Þar með losnaði feikileg orka í virkjunum á Tungnársvæðinu. Þessa orku mætti sem best selja ALCOA á Reyðarfirði. Vissulega yrði að ... Hafnfirðingar eiga að greiða atkvæði um stækkun álversins áður en langt um líður. Þeir eiga sem sagt stórkostlegan leik í stöðunni sem myndi...
30. September 2006
...Ég sé ekki betur en allskonar lið sé nú orðið óskaplega grænt og sjái ekkert því til fyrirstöðu að sameina bæði umhverfisverndina og þjónkun undir alheimskapítalið. Hefði þá ekki verið betra að við sossarnir sem ekki skrifum upp á einkavinavæðinguna og sjálftökukerfið hefðum gefið skít í Samfylkingarkratismann og haldið áfram að andæfa græðginni á hreinum vinstri forsendum? Ég var að lesa eitthvað eftir einhvern nýjan Samfylkingarmann sem var eins og dæmigerður já og nei maður, og talaði um umhverfismálin eins og hreinræktaður Framsóknarmaður og að það væri hægt að vera hvorki til hægri né vinstri og bara taka svona meðaltalið af þessu öllu saman. Ég held hann heiti Dofri ...
Jónatan
30. September 2006
Bandaríski herinn er horfinn af landi brott, góðu heilli. Sögu hersetunnar á hins vegar eftir að gera skil. Það verður ekki gert fyrr en öll kurl eru komin til grafar... Það er greinilegt að Þór Whitehead sagnfræðingur hefur strokið mörgum manninum öfugt í Kastljósþætti hinn 21. september síðastliðinn. Ekki leið langur tími þar til ég hafði fengið senda grein frá ... Rúnari Sveinbjörnssyni. Rúnar er góður félagi í vinstripólitíkinni en hann á jafnframt sterk fjölskyldutengsl til verkalýðsbaráttu á Kaldastríðsárunum og þykist ég vita að honum renni blóðið til skyldunnar þegar dylgjað er um heiðvirða íslenska verkamenn...Þá hvet ég fólk mjög eindregið til þess að lesa grein Kjartans Ólafssonar í Morgunblaðinu í dag. Ég tek mér það bessaleyfi að birta grein hans hér að neðan. Ég birti einnig mjög góða og upplýsandi grein eftir Árna Björnsson, sem birtist í Morgunblaðinu hinn 6. júlí. Tilvísun mín í skrif þessara ágætu manna geri ég að kveðju minni til bandarískrar hersetu á Íslandi. Eitt er víst og verður hverjum og einum augljóst við...
29. September 2006
Iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins er illa upplýstur og fer með ósannindi um stöðu virkjanamála í Skagafirði.
Allt er til reiðu fyrir Villinganesvirkjun, aðeins skortir leyfi sveitarstjórna. Nýr meirihluti Samfylkingar og Framsóknar í sveitarstjórn Skagafjarðar hefur gefið grænt ljós á að fórna Jökulsánum og vill heimila bæði Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun á skipulagi.
Í þættinum „Ísland Í Dag“ á NFS í gærkvöldi var Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins spurður um afstöðu til virkjana í Jökulsánum í Skagafirði. Ráðherrann svaraði spurningunni á þann veg að virkjanaáformin í Jökulsánum væru mjög skammt á veg komin og aðeins hefði verið veitt rannsóknaleyfi fyrir Villinganesvirkjun en virkjunarleyfi hefði ekki verið veitt.
Þetta er rangt hjá ráðherranum. Með...
Skagfirðingur
27. September 2006
Er Kárahnjúkavirkjun hægra og vinstra hvel allrar hugsunar hjá VG ?...
Kalli
26. September 2006

...Ítalíumegin landamæranna á Rívierunni – aðeins upp til fjalla - er þorpið Dolceacqua. Þangað fórum við á laugardagskvöldið. Þar sáum við sýningu, ítalska ljósmyndarans Eugenio Andrighetto á ljósmyndum sem hann tók í Íslandsferð sinni sumarið 2000. Myndirnar voru í einu orði sagt, stórkostlegar og fékk ljósmyndarinn lófaklapp að sýningu lokinni. Ekki síst þótti fólki mikið til fossamynda Eugenios Andrighettos koma. Þar í bland var fossaröðin sem drekkt verður í Hálslóni við Kárahnjúka. Um það var ekki rætt á sýningunni í Dolceacqua. Ég held að í salnum þar sem sýningin fór fram hefði enginn trúað því að til stæði að eyðileggja þessa fegurð. Í lesnum texta Eugenios Andrighettos með myndunum, sagði að á Íslandi væri menntaðasta og gjörvulegasta þjóð í heimi! Eugenio var ekkert að draga af sér þegar hann lýsti aðdáun sinni á Íslandi og Íslendingum. Sennilega hafði hann ekki ...
25. September 2006
... Hann er búinn að hnoða saman ævintýrasögu til að skjóta stoðum undir leyniþjónustu Björns Bjarnasonar og eins til þess að sýna fram á að það hafi verið bæði eðlilegt og nauðsynlegt að stunda símhleranir forðum tíð. Allir sem kynnt hafa sér sögu verkalýðshreyfingarinnar og friðarbaráttu hér á landi vita hins vegar að margt sem Þór Whitehead hefur fram að færa til að auðvelda leynifæðinguna hans Björns er fært í stílinn. ... Hér eru nokkrar staðreyndir sem ...
24. September 2006
„Ég er hrædd um að þau sem ganga um Kárahnjúkasvæðið í nánustu framtíð og lesa á skilti , hér rann Kringilsá, hér féll Tröllafoss, hér var Hafrahvammagljúfur, blessuð sé minning þeirra, muni ekki líta á verkið sem sjálfsbjargarviðleitni rísandi þjóðar heldur grátlegan hroka velmegunarríkis sem kunni sér ekki magamál.“ Þetta eru niðurlagsorðin í áhrifaríkri útvarpsmessu frá Laugarneskirkju í dag þar sem séra Hildur Eir Bolladóttir prédikaði. ... Af hlaðinu á Hólum í Hjaltadal veltir Hildur Eir fyrir sér muninum á þörf og græðgi. Hún vitnar til þess þegar verið var að blessa Auðunnarstofu hina nýju, tilgátuhús, sem reist var til að heiðurs Auðunnarstofu hinni fornu, sem byggð var á 14. öld, en rifin í miklum harðindum um 1810 til að ...
22. September 2006
Birtist í Morgunblaðinu 21. september 2006
Í magnaðri grein sem birtist í Morgunblaðinu nýlega eftir dr. Gunnar Kristjánsson prófast og prest á Reynivöllum í Kjós, Stríð streymir Jökla, dregur höfundur fram þá togstreitu sem iðulega hefur verið á milli manns og náttúru. Íslendingar hafi löngum litið á náttúruna sem afl sem þyrfti að sigrast á: "Iðnbyltingin fór framhjá okkur og framkvæmdir með stórfelldu inngripi inn í náttúrulegt umhverfi gerðust hér síðar en annars staðar í hinum vestræna heimi. Á meðan náttúruspjöll hafa fylgt iðnvæðingu og vaxandi ágangi á óspillt svæði annars staðar hefur tíminn unnið með lífríki Íslands. Engu að síður hafa Íslendingar eins og aðrar þjóðir haft tilhneigingu til að líta á náttúruna sem andstæðing sem þyrfti að sigrast á, beisla og gera sér undirgefinn."
21. September 2006
Ögmundur, í viðtali við Morgunblaðið, miðvikudaginn 13/9 sl., var Alain Belda, aðalsforstjóri ALCOA m.a. spurður um ástæðu þess að einungis stæði til að nota þurrhreinsibúnað í stað þurrhreinsi- og vothreinsibúnaðar. Hann bar fyrir sig niðurstöður Skipulagsstofnunar, sem nýlega birti álit um umhverfismat álversins. Þar kemur fram að báðir kostir væru fullnægjandi til að halda loftmengunneðan tilgreindra marka! Þessi hluti svars forstjórans er vel að merkja réttur. Skipulagsstofnun grundvallar sitt álit á þeirri mengunarviðmiðun, sem gildir innan Evrópusambandins. Þar nýtast ALCOA þeir einstöku kostir að fá tækifæri til að hleypa mun meira magni mengandi efna út í andrúmsloftið yfir Íslandi vegna "hreinleika loftsins", en ella væri ef á Íslandi væri mengandi iðnaður fyrir.
Sveinn
21. September 2006
...En hverjir óskuðu eftir þessari könnun? Það voru forsvarsmenn Ríkisútvarpsins og þá væntanlega að undirlagi Páls Magnússonar útvarpsstjóra, því útvarpsráð kom ekki að þessari ákvörðun. Útvarpsstjórinn Páll Magnússon hefur verið í pólitísku slagtogi með einkavæðingarsinnum á Alþingi um að gera RÚV að hlutafélagi. Þar er ég ósammála útvarpsstjóra en viðurkenni að hann á rétt til sinnar sannfæringar eins og aðrir. En þá ber honum líka að berjast heiðarlega fyrir henni. Það gerir hann ekki með því að spyrja misvísandi spurninga í nafni Ríkisútvarpsins. Slíkt kallast misnotkun...
20. September 2006

Föstudaginn 22. september verður haldin ráðstefna í Hafnarfjarðarkirkju um "sáttaferli á átakasvæðum heimsins með erlendum sáttasemjurum í fremstu röð". Í fréttatilkynningu segir á meðal annars um fyrirlesara og viðfangsefni “Dr. Rodney Petersen forstöðumaður Guðfræðistofnunarinnar í Boston,
Boston theological Institute og dr. Raymond Helmick S. J., Jesúítaprestur og alþjóðlegur sáttasemjari til fjölda ára hafa þróað og beitt árangursríkum aðferðum til sáttaumleitana á átakasvæðum m.a. á Balkanskaga, Norður-Írlandi og í Landinu helga.”...Fyrir mitt leyti þykir mér þetta vera afar áhugavert viðfangsefni og kemur þá fyrst upp í hugann sáttaferlið í Suður-Afríku sem Desmond Tutu stóð í fararbroddi fyrir. Með sáttaferlinu tókst Suður-Afríkumönnum að rjúfa vítahring hatursins sem einkennir helstu samfélög á helstu átakasvæðum heimsins...
20. September 2006
... öll röskun á rafmagnsflæði frá Kárahnjúkum yrði ekkert annað en rothögg fyrir íslenskt efnahagslíf og reyndar sýnist mér að skaðinn yrði enn meiri en Sigurður áætlar. Eftir að hafa sett allar breytur inn í dæmið er niðurstaða mín sú að þjóðin mundi tapa 952 milljörðum króna á tveimur árum. Og rétt er að hryðjuverkaöflin til vinstri svari eftirfarandi spurningu; hvar ætla þau að sækja það fjármagn? Á kannski ...
Jón Bisness, athafnaskáld
18. September 2006

Hinn 1. september birti Ríkisútvarpið viðtal Ólafar Rúnar Skúladóttur við Davíð Oddsson, núverandi seðlabankastjóra og fyrrverandi forsætisráðherra, þar sem komið var inn á þetta málefni. Viðtalið er mjög upplýsandi fyrir afstöðu og vinnubrögð þessa fyrrum verkstjóra í ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Í viðtalinu er Davíð Oddsson spurður um fyrrnefnda skýrslu Gríms Björnssonar og segir hann meðal annars:
"Ég skil svo sem ekkert í þessari umræðu, þessi skýrsla er búin að liggja fyrir í 3-4 ár. Hennar er getið í bók sem kom út árið 2003 og ég veit ekki hverskonar leyniskýrsla það er sem er getið sérstaklega á prentuðum bókum og allt í einu er þetta orðin merkileg leyniskýrsla. Það er hins vegar þannig að Alþingi ...18. September 2006
Sæll! Mig langaði bara til að komast að því hvað er að gerast þarna við Eyjabakka. Nú er það þannig að ég þekki mann sem er að vinna þar sem gröfumaður(og er búinn að vera það í ca. ár) og hann segir að það sé verið að sökkva Eyjabökkum svona án þess að segja neinum. Hann er búinn að vera þarna í langan tíma þannig að þetta er búið að vera að gerast í einhvern tíma. Það á víst að reisa þar einhverjar stíflur og læti. Getur það verið? Er þetta rétt hjá honum? Með kveðju,
Guðrún Beta
17. September 2006
...Það er vissulega fagnaðarefni ef Samfylkingin ætlar að leggja aukna áherslu á umhverfismál. Þegar talsmenn hennar fjalla um stefnu VG er hins vegar vinsamlegast mælst til þess að farið sé með rétt mál.
Sjálfur var ég á sínum tíma fylgismaður Samfylkingarinnar og trúði á fagurgalann um hina umhverfisvænu stefnu. Eftir atkvæðagreiðsluna um Kárahnjúka ákvað ég að ég myndi ekki framar láta sannfærast af fögrum orðum. Eftirleiðis yrðu stjórnmálamenn að sýna mér hug sinn í verki. Síðan hef ég fylgt VG að málum og líkar það vel. Þar er stefnan skýr.
Umhverfisvænn félagi í VG
17. September 2006

... Í grein sinni segir Jón Bjarnason m.a. :
" Nú í gær varð bilun í ljósleiðara á Norðurlandi með þeim afleiðingum að öryggiskerfi sjófarenda fyrir öllum Vestfjörðum og Norðurlandi féll út svo og útsendingar útvarps og sjónvarps á mörgum stöðum sem einnig eru hluti öryggiskerfis landsmanna. Bilunin stóð í 15 klukkustundir."
Og Jón Bjarnason rifjar upp:
"Í kjölfar sölu Símans fylgdu uppsagnir á starfsfólki og lokun starfsstöðva víða um land, hækkað verð og skert þjónusta. Þetta gerðist á Ísafirði, Blönduósi, Sauðárkróki Siglufirði já hringinn í kringum landið hefur þjónustustöðvum verið lokað og íbúarnir bera skarðan hlut.... Jón Bjarnason hafði forgöngu um það á sínum tíma að þingflokkur VG bar fram tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort einkavæða ætti Landsímann. Sú tillaga fékk ekki stuðning annarra flokka á Alþingi en Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Það er ekki að undra að Jón Bjarnason velti því fyrir sér hvort...17. September 2006
Birtist í Fréttablaðinu 16.09.06.
...Við erum kallaðir lygarar, menn sem “sannleikurinn virðist engu skipta” því “tilgangurinn helgi meðalið”. Hjálmar telur að jafnharðan og flett sé ofan af lygum okkar séum við komnir fram með ný ósannindi. “Í stað þess að skammast sín fyrir lygarnar og ásakanirnar búa þeir til nýtt leikrit sem hefst á því að Ögmundur gengur af fundi iðnaðarnefndar og baðar út öllum öngum í fjölmiðlum. Nú er það leynd Landsvirkjunar sem er glæpurinn...”
Ekki ætla ég mér að reyna að hafa áhrif á hvernig formaður þingflokks Framsóknarflokksins hagar málflutningi sínum, hvaða orð hann notar og hvernig. Það er hans mál.
Lesendum til glöggvunar vil ég hins vegar...
16. September 2006
...Afhverju er ekki löngu búið að beita ályktun 377 í öryggisráðinu gegn Ísrael og fram hjá Bandaríkjunum?
Jón Þórarinsson
16. September 2006
...Svör fulltrúa bæði Landhelgisgæslu og Neyðarlínu voru þau að eftir einkavæðingu Símans væri öll viðskipti á markaðsgrunni. Viðskitavinir tækju ákveðnar línur á leigu. Bili þær þá er ekkert samband. Vilji viðskiptavinir auka öryggið verði þeir að kaupa sér sérstaka tryggingu gagnvart slíkum bilunum og leigja aðgang að varaleiðum. Fram kom að slíkir aukamöguleikar kosturðu stórfé. Einkavæðing Símans og útboð á öryggisþáttum sjófarenda sem og annarra landsmanna hefur leitt til mun dýrari þjónustu en áður og minna öryggis. Meðan Síminn með grunnetinu var í opinberri eigu var það þjónustan sem var veitt og Landsíminn nýtti alla sína sameiginlegu tækni til að veita þá bestu þjónustu sjálfkrafa, líka í bilanatilfellum.
Allt þetta...
16. September 2006
Birtist í Morgunblaðinu 15.09.06.
...Að mínu mati ber lífeyrissjóðunum tvímælalaust að haga reglum sínum á þann veg að framreikningurinn byggi á launavísitölu en ekki neysluvísitölu. Aðeins með því móti fæst samsvörun við launakjörin, sem fyrirheit voru um að tryggja.
Almannatryggingakerfið þarf að koma betur til móts við öryrkja en nú er gert. Þetta þarf að gera gagnvart öryrkjanum beint en einnig óbeint með stuðningi við lífeyrissjóðina. Hvað þá áhrærir er að mínu mati réttmætt að grípa til sértækra aðgerða gangnvart þeim lífeyrissjóðum sem bera mestu örorkubyrðarnar en þess eru dæmi að ...
15. September 2006
...Þetta veit Valgerður Sverrisdóttir, háttvirtur ráðherra og þingmaður til margra ára, eins vel og ég og því er eðlilegt að spyrja: Hvenær og með hvaða hætti voru athugasemdir Gríms hraktar “með vísindalegum rökum”? Hvaða vísindamenn unnu það verk og af hverju hafa niðurstöður þeirra ekki verið birtar opinberlega? Einmitt með opinberri birtingu á þessu vinnuferli væri málsvörn Valgerðar ef til vill aðeins betur borgið. Varla getur það verið...
Þjóðólfur
15. September 2006
...Vilja Vinstri græn álverslaust ísland?
Bestu kveðjur,
Jón Þórarinsson
14. September 2006
...Sannast sagna ætlaði ég upphaflega að fylgja Samfylkingunni að málum. Var henni meira sammála um ýmislegt en ykkur í VG. Ég set hins vegar umhverfismálin í forgang. Þess vegna styð ég VG en ekki Samfylkinguna sem gengur í meðmælagöngu fyrir áli á Húsavík, vill álver í Helguvík og stækka í Straumsvík, eða hvað segið þið um þessar fréttir hér að neðan? Eftirfarandi fréttir eru á vef RÚV 13. sept. 2006. Trúverðugt? Ég bara ...
Snjólfur.
14. September 2006
...Styð þig heilhsugar í aðgerðum þeim er þú gekkst út af fundi Iðnaðarnefndar til að mótmæla leynipukrinu. Þjóðin á rétt á því að öll spilin verði lögð á borðið. Skora á þá er lesa síðuna þína að taka undir í baráttu fyrir opnu og lýðræðislegu þjóðfélagi...
Sigurbjörn Halldórsson
14. September 2006
Félag um verndun hálendis Austurlands safnar nú liði með undirskriftasöfnun. Okkur í Vinstrihreyfingunni grænu framboði er þetta fagnaðarefni enda er þessi barátta í nákvæmlega þeim anda sem við höfum barist á undanförnum árum.
Í yfirlýsingu segir einnig um markmið félagsins: "Nú berst það einnig fyrir öryggi og heill íbúanna. Þess er krafist að óháð matsnefnd meti áhættu og arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og fyrr verði engu vatni hleypt á Hálslón. Við viljum að fólk geti vegið og metið af skynsemi hvort ekki sé heillavænlegast að eiga víðernin og vistkerfin áfram og þar með að eyða þeirri ógn sem af Kárahnjúkavirkjun stafar í byggð. Minnumst þess að ...
14. September 2006
Nú ætla ég að koma með ábendingu. Nú vantar starfsfólk á Kefluvíkurflugvöll og það væri hægt að ráða allt það starfsfólk sem kæmi frá varnarliðinu mjög einfalt og gott. Þar þarf engin álver...
Jón Þórarinsson
13. September 2006
Það er kostulegt að hlusta á unga þingmenn, sem ættu að hafa áhuga á opinni umræðu og gagnsæju þjóðfélagi, fullyrða að þeir verði að þegja til að gæta viðskiptahagsmuna – ekki almennings heldur LV og ALCOA. Hér skal ekkert fullyrt um hvert verðið er, en hvers vegna má ekki upplýsa þjóðina – sem á auðlindina og orkufyrirtækið – um það? Bygging virkjunar og verksmiðju er á lokastigi. Hverju breytir þó að þjóðin fái þessar upplýsingar úr því sem komið er? Dettur einhverjum í hug að hætt verði við allt saman ef upp kemst um orkuverðið? Nei, auðvitað ekki. Hins vegar getur farið svo að þjóðinni ofbjóði, og það sem enn áhugaverðara er – evrópsk samkeppnisyfirvöld kunna að líta á verðið sem ólögmætan og samkeppnishamlandi styrk. Þögnin um orkuverðið æpir á kjósendur nokkrum mánuðum fyrir Alþingiskosningar. Að þessu sinni...
13. September 2006

...Ólafur Ragnar Grímsson sagði það vera miður hversu mörg samfélög heimsins væru byggð á vantrausti. Hryðjuverkaöfl mættu ekki ná þannig tökum á hugsunarhætti og hegðun fólks að samfélaginu væri gjörbreytt og umturnað.: "
Ef að það gerðist, þá væru hryðjuverkaöflin búin að ná þeim árangri að þau gætu svo sannarlega hrósað sigri. Og framlag Íslands, í þessum nýja heimi eftir 11. september, er kannski fyrst og fremst það að sýna í verki að þrátt fyrir allt þá sé hægt að vera með þjóðfélag sem er opið og öruggt og frjálst og lýðræðislegt, án þess að reisa varnarmúra tortryggni og ótta. Við séum samfélag sem byggir á því að treysta öllum, þar til það kemur í ljós að það er ekki hægt að treysta þeim. "
Undir þetta skal tekið. Einu má bæta við. Það eru því miður ekki aðeins ...
13. September 2006
...Svo á að heita að við Íslendingar búum í elsta lýðræðisríki heimsbyggðarinnar, sem ætti að vera stór fjöður í okkar hatt. En lýðræðið á að vera í alvöru, ekki bara í sögubókum, hvað þá sýndarveruleiki. Það er til lítils að gleðjast yfir fornri frægð ef við höfum ekki manndóm til að gefa lýðræðinu inntak á vorum dögum. Ég er nánast orðlaus yfir leynimakkinu og finnst bæði Alþingi og okkur öllum - íslensku þjóðarfjölskyldunni – gerð skömm til. Og það mega menn vita að ef lýðræði á að vera annað og meira en orðin tóm verður þjóðfélagið að vera opið og þjóðin virk í málum sínum! Ég er svo sannarlega sammála þér Ögmundur, og geri ráð fyrir að öll þjóðin sé það líka, að það sé komin tími til að ...
Helgi Geirsson
12. September 2006

...við skyldum ekki gleyma því að þessar framkvæmdir eru á vegum fyrirtækja í almannaeign: Landsvirkjun er jú í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar og Akureyrar og
allar framkvæmdir á hennar vegum eru á ábyrgð skattborgarans!!! Þetta er öllum augljóst – nema náttúrlega Framsókn.
Birkir Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gegnir embætti formanns iðnaðarnefndar nú um stundir. Hann kom fram í fréttum og lýsti furðu á því að alþingismenn vildu upp á dekk gagnvart
fyrirtæki úti í bæ með því að krefjast þess að það opni bókhald sitt gagnvart almenningi. Stundarkorn velti ég því fyrir mér hvort væri
fyrirtækið úti í bæ, Alcoa eða Landsvirkjun. Ég komst að sömu niðurstöðu og klippari Sjónvarps, sem myndskreytti tilvísun Birkis til
fyrirtækisins úti í bæ með merki Landsvirkjunar. Látum vera þótt þingmanni Framsóknarflokksins finnist það vera...
12. September 2006
Háttalag LSV að því er "upplýsingamiðlun" um starfsemi fyrirtækisins varðar, líkist sífellt meir því sem viðgengist hefur meðal leyniþjónusta þeirra ríkja sem eiga í hernaðarátökum. Landsvirkjunarmenn finna sig greinilega í svipaðri stöðu, verandi í "hernaði gegn landinu og hluta landsfólksins". Háttur leyniþjónusta við slíkar aðstæður er ekki hvað síst að miðla "misvísandi" upplýsingum. Þannig er allt gert til að fegra ástandið þegar illa gengur. Þetta hefur ...
Sveinn
11. September 2006
...Látum vera að þingmenn væru prívat og persónulega þeirrar skoðunar að það bæri að virkja við Kárahnjúka. En að sjálfsögðu átti að leyfa okkur – þjóðinni – að ráða í þessu mikla deilumáli! Ég fletti upp á þessari atkvæðagreiðslu á vef Alþingis og sé þar að enginn (!!!!) utan VG treysti sér til þess að greiða þessari tillögu atkvæði. Skyldi umhverfissinnað fólk muna þetta í næstu kosningum? Hér má sjá atkvæðagreiðsluna um nefnda tillögu...
Sunna Sara
11. September 2006
Á framhaldsfundi iðnaðarnefndar í dag kröfðust fulltrúar Landsvirkjunar þess, að því aðeins kynntu þeir nýtt arðsemismat Kárahnjúkavirkjunar fyrir þingnefndinni að þingmenn hétu því að þegja um upplýsingarnar ! Með þessu móti er greinilega verið að reyna að múlbinda alþingismenn og koma í veg fyrir að þeir geti talað opið um þessi mál. Ég sagði að þetta væri út í hött, það væri komið nóg af leynimakki, bæði þing og þjóð ættu kröfu á því að öll spil yrðu lögð á borðið. Fulltrúar Landsvirkjunar létu gagnrýni mína sem vind um eyru þjóta og fengu stuðning formanns iðnaðarnefndar, Birkis Jónssonar, í þessu efni. Ég sá mér þá ekki annað fært en víkja af fundinum og sagðist ekki myndu taka þátt í yfirhylmingu gagnvart þjóðinni því auðvitað er fyrst og fremst verið að halda upplýsingum leyndum gagnvart henni. Að mínu mati er leynimakkið í tengslum við þessar framkvæmdir beinlínis orðið þjóðhættulegt. Það er gjörsamlega fráleitt og fullkomlega óásættanlegt að ekki geti...
10. September 2006
...Það kom mörgum á óvart, að ítalskt fyrirtæki bauðst skyndilega til að ráðast í mjög umdeilda framkvæmd á hálendi Íslands. Fyrirtæki þetta, Impregíló virðist hafa ratað í ýmsar fjárhagslegar ógöngur sem eru mjög athyglisverðar. Ekki hafði það riðið feitum hesti frá umdeildum framkvæmdum í Lesóthó í Suður Afiríku, m.a. vegna mútumála sem urðu mikill fréttamatur í þann tíð.
Nú má vera freistandi að leggja saman tvo og tvo: var þessu fyrirtæki sigað á hálendi Íslands til að rétta það af fjárhagslega? Við þurfum að fá einhvern sérfræðing í fjármálum að fara í þessa sauma. Mér sýnist á heimasíðu Impregíló...
9. September 2006
Í mjög góðri og athyglisverðri grein eftir bandaríska metsöluhöfundinn, William Rivers Pritt, sem meðal annars hefur skrifað tvær bækur um Írak stríðið, eru raktar lið fyrir lið lygar Bush Bandaríkjaforseta og ráðandi manna í ríkisstjórnum hans, um Írak stríðið og langar mig Ögmundur til þess að birta hana sem eins konar viðhengi við þetta bréf mitt til þín. Hún er á ensku og ég hef ekki tök á að þýða hana en fyrir þá sem skilja ensku er greinin ómetanlegur gagnabanki.
Umrædd grein heitir: We used to impeach liars. Á íslensku myndi þetta útleggjast, Við vorum vön að ...
Haffi
9. September 2006

Eftir að NFS fréttastöðin gekkst í málið hefur upplýsingafulltrúi bandaríska hersins hér á landi upplýst að búið sé að loka hinum herstjórnarlega þætti loftferðakerfis hersins hér á landi. Þetta þýðir að þótt ratsjárstöðvarnar séu enn til staðar er ekki lengur tekið við merkjasendingum þaðan. Enn er tekið á móti merkjasendingum til íslensku flugumferðarstjórnarinnar – sendingum sem þjóna almennri flugumferð. En hversu lengi? Íslensk stjórnvöld verða að svara því hvort um þetta hafi verið gerðir samningar og til hve langs tíma. Slíkur hefur rolugangurinn verið, að hreinlega öllu er trúandi upp á ríkisstjórnina í þessu efni. Ár eftir ár ...
8. September 2006
Hugmynd um Keflavíkurflugvöll; Í gær sótti ég málþing um eldfjallagarð á Reykjanesi og kom þar upp hugmynd um að nýta byggingarnar á herstöð Keflavíkur til þess að byggja upp háskólasamfélag sem ætlað væri að laða að fólk erlendis frá í rannsóknir og nám í jarðfræðunum öllum, bæði BA, Master og Doktorsnám. Þar væru nemar og vísindafólk í næsta nágrenni við plötuskil og eldfjallagarðinn sem gengur inn á land þarna við Atlantshafið. Hvernig væri að kanna ...
Andrea
7. September 2006

...SA þykist vilja leita hagkvæmustu leiðanna við skipulag og rekstur heilbrigðisþjónustunnar. Ekki er ég mótfallinn því. En þá skulum við líka leita í alvöru. Við skulum kynna okkur reynslu annarra af einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar.
Hvernig væri til dæmis að byrja að lesa bækling eftir Göran Dahlgren, einn fremsta sérfræðing á Norðurlöndum á þessu sviði, en hann hefur gagngert rannsakað kerfisbreytingar í heilbrigðiskerfinu með tilliti til þjónustu og kostnaðar. Niðurstaða Görans Dahlgrens er sú að einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar hafi, þegar á heildina er litið, gert þjónustuna dýrari auk þess sem félagslegt misrétti hafi aukist. Viljum við það? Leiðarahöfundur Morgunblaðsins – sá sem í vikunni skrifaði leiðara um þetta efni undir yfirskriftinni, Einkarekinn valkostur, mætti einnig gjarnan...
7. September 2006
...Þeir sem annað veifið fá þessa græðgikveisu ættu að skoða reynslu nærliggjandi landa, sem hafa farið út í einkabisnis með heilbrigðiskerfið og læknaþjónustu. Reynslan kennir að það hefur hvergi gengið blessunarlega. Ef læknar eru ekki á annað borð orðnir forfallnir aurasjúklingar, ættu þeir að lesa hvatningu og óð Hippocratesar, draga djúpt andann, taka eina magnil og skammast sín svolítið. Íslenska hjúkrunarkerfið, sem komin er góð reynsla á, hefur lengi verið öðrum löndum til mikillar fyrirmyndar, og hafa Íslendingar ástæðu til að vera hreyknir af því. Bandaríska heilbrigðiskerfið sem gróðahyggjufólkið einblínir á, er til dæmis margfalt dýrara og þyngra í vöfum bæði opinberi og einkaeignar þátturinn. Þá er auðvitað ekki verið ræða um þær stofnanir sem þjóna eingöngu ríku fólki og auðkýfingum sem þurfa ekki að hafa áhyggjur af kostnaðinum. Svo skal benda á, að...
Helgi Geirsson
5. September 2006
...Víst eru Kárahnjúkar stór mál en af hverju heyrist lítið frá ykkur um mál Keflavíkurflugvallar? Það er mál sem þarf að tala meira um svo ekki fari illa.
Haraldur Magnússon
5. September 2006
Það er verið að auglýsa ráðstefnu um Schengen og EES að Bifröst 8. þessa mánaðar. Samferða er látið líta svo út að aðal hlutverk Schengen snúist um fjölþjóða lögreglumál, sem hljómar gott og vel. Hvaða Íslendingur telur ekki nauðsynlegt að hafa hendur í hári erlendra glæpamanna sem hópast til landsins, og Halldór Ásgrímsson drap á í kveðjuræðu sinni og háttvirtur dómsmálaráðherra sagðist sammála í vefpistli sínum. Auðvitað eigum við að hafa náið samband við allar grannaþjóðir okkar, ef ekki allar þjóðir heims, hvað lögreglusamstarf snertir, og þá að koma glæpamönnum á bak við lás og slá. En það er ekki aðal ástæðan fyrir Schengen! Að halda því fram er einfaldlega fals og lygi...
Úlfljótur
5. September 2006

Afleitt er þegar læknar og hjúkrunarfólk ruglar saman starfi sínu innan heilbrigðiskerfisins annars vegar og löngun til að græða peninga í bisniss hins vegar. Látum það vera þótt starfsmenn innan heilbrigðisþjónustunnar vilji fá vel greitt fyrir sín störf. Ekki er ég andvígur því þótt þar vilji ég fyrir alla muni að horft sé til réttlátrar skitpingar á milli starfsfólksins. Verra er þegar þessir aðilar vilja umbylta heilbrigðisþjónustunni í bisnissrekstur til að hagnast á henni. Þetta kom upp í hugann þegar okkur voru sagðar þær fréttir af þingi
Læknafélags Íslands um helgina að nú þyrfti að fara að reisa einkasjúkrahús í samvinnu við peningamenn! Athygli vakti orðalagið í gagnrýni á sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík en samkvæmt fréttum RÚV lítur Læknafélagið svo á
að... 4. September 2006
Mér finnst ótrúlegt að sumir þingmenn Samfylkingarinnar hafi greitt atkvæði með Kárahnjúkavirkjun þrátt fyrir skort á upplýsingum, þeir hefðu betur greitt atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun vitandi það að það skorti upplýsingar en ég er ánægður með að VG greiddu atkvæði gegn ...
Jón Þórarinsson
2. September 2006
Ég er sammála Hirti Hjartarsyni að þörf er á meiri fagmennsku í fréttirnar. Vaðandi hringlið í skattamræðunni hefur hreinlega skort á að fjölmiðlarnir sjálfir færu í saumana á málunum. Eftir það geta stjórnmálamenn og aðrir rifist um stefnu. Þeir eiga ekki að þurfa að rífast um hverjar eru staðreyndir mála. Síðan er náttúrlega hitt, að ríkisstjórnir undangenginna ára skuli hafa komist upp með annað eins niðurrif á samfélagi og eyðileggingu á landi án þess að þurfa í alvöru að standa skil gerða sinna frammi fyrir þjóðinni. Þar ber stjórnarandstaðan ábyrgð að undanskilinni...
Haffi
2. September 2006
...Ekki þarf að taka fram að það hýrnaði heldur betur yfir forsætisráðherranum við þessa játningu fréttamannsins. Svipað er uppi á teningnum á NFS, þar sem fréttamaður spyr ekki út í málsatvik og rök viðmælenda sinna, heldur kemur eitthvert stefnulaust bull líkt og: "Eruð þið ekki bara að reyna finna eitthvað upp til að tefja fyrir fyllingu Hálslóns." Mér finnst vanta á fagmennsku í íslenskri fjölmiðlun. Rás 1 ber þó af og Jóhanna kastljóska hefur gert góða hluti.
Hjörtur Hjartarson
1. September 2006

...Davíð Oddsson, seðlabankastjóri hefur aðra skoðun á þessu máli. Það er honum að sjálfsögðu frjálst að hafa og ekkert nema gott um það að segja ef ekki væri fyrir þær sakir að Ríkisútvarpið gerir hann að eins konar prófdómara í þessu máli. Þegar menn opnuðu vefsíðu Ríkisútvarpsins í morgun gat þar að líta flennimynd af Davíð Oddssyni. Fyrirsögn stórfréttar Ríkisútvarpsins var einkunnagjöf þessa merka álitsgjafa: Davíð Oddsson segir umræðu um Grímsskýrslu vera vitleysu...
1. September 2006
Nokkur umræða hefur verið um viðtal Kristjáns Kristjánssonar við Valgerði Sverrisdóttur fyrrverandi iðnaðarráðherra í Kastljósi þar sem hún reyndi að gera sem minnst úr skýrslu Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings um þær hættur sem hann telur að séu til staðar á virkjunarsvæðinu. Mér fannst frammistaða þáttastjórnandans Kristjáns Kristjánssonar til mikillar fyrirmyndar. Hann sætti sig ekki við útúrsnúninga Valgerðar um það hvers vegna skýrslunni var stungið undir stól á sínum tíma og efni hennar leynt fyrir þjóðinni og kjörnum fulltrúum hennar.
Þorleifur
31. Ágúst 2006
...Ef það er rétt sem þú segir hér á síðunni, Ögmundur, að Steingrímur J. Sigfússon hafi verið búinn að fallast á að mæta Valgerði Sverrisdóttur í Kastljósi en hún hafi neitað að mæta nema ein, eins og þú getur þér til um að hafi gerst, þá áttu Kastljósmenn að láta Steingrím mæta einan en ekki Valgerði, sem setti afarkostina. Í sæti Valgerðar hefði mátt setja spjald þar sem á stæði að hún hefði neitað að mæta til þess að verja sinn málstað frammi fyrir pólitískum andstæðingi sínum. Sjónvarpið á ekki að láta bjóða sér þessa framkomu, ekki bara fyrir eigin hönd, heldur fyrir hönd okkar hlustenda og áhorfenda. Mér fannst ...
Sunna Sara
30. Ágúst 2006
...Mig langar að vita hvaða afstöðu Vinstri græn taki til fóstureyðinga? Gott væri ef að í svari kæmi fram t.d hvort þið séuð með eða á móti...
Steini
30. Ágúst 2006

Í morgun sat ég þingflokksfund VG þegar inn á fund okkar kom hringing þar sem óskað var eftir því að
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fulltrúi þingflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis kæmi í Kastljós Sjónvarps í kvöld og ræddi þar við Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðarráðherra, um yfirhylminguna á skýrslu Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings, og þátt Valgerðar þar. Steingrímur tók þessu fagnandi og kvað sjálfsagt að mæta. Ég hugsaði með sjálfum mér, að ólíklegt væri að af þessu sjónvarpseinvígi yrði og hafði ég þá þegar einnig miklar efasemdir um að Valgerður vogaði sér inn á fund iðnaðarnefndar sem boðaður hafði verið í dag, en þar hafði einnig verið óskað eftir nærveru hennar. Og það fór sem mig grunaði. Valgerður mætti...
29. Ágúst 2006

Að undanförnu hefur farið fram talsverð umræða um aðkomu Íslendinga að friðargæslustörfum. Eins og kunnugt er olli það talsverðum deilum þegar íslenskir friðargæsluliðar voru sendir til Afganistans til starfa í tengslum við Bandaríkjaher og NATÓ. Þótti okkur mörgum að verið væri að koma á fót íslenskum her bakdyramegin. Þessu var afdráttarlaust neitað af hálfu utanríkisráðuneytisins þótt myndir af íslenskum friðargæsluliðum sýndu menn með alvæpni og fram kæmi að þeir bæru titla og heiti sem notuð eru í herjum.
29. Ágúst 2006
Í leiðara Fréttablaðsins 29. ágúst fjallar Þorsteinn Pálsson um þátt Valgerðar í því að leyna upplýsingum fyrir Alþingi. Þorsteinn telur ekki réttmætt að krefjast afsagnar ráðherrans. Í fyrsta lagi vegna þess að ráðherranum bar engin lagaskylda til að koma upplýsingunum á framfæri við Alþingi og hins vegar vegna þess að ráðherrann verður "ekki sakaður um að hafa hindrað að kjörnir fulltrúar almennings kæmust á snoðir um efni skýrslunnar. Það má til að mynda ráða af því einu að skýrslan var afhent Landsvirkjun. Í stjórn hennar sitja lýðræðislega kjörnir fulltrúar löggjafarsamkomunnar ...", eins og segir í leiðaranum.
Þetta er hæpin röksemdarfærsla hjá Þorsteini en ...
Hjörtur Hjartarson
28. Ágúst 2006
...Hrikaleg eru ummæli Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðarráðherra, sem segir að Alþingi hafi fengið allar þær upplýsingar sem skiptu máli! Það eru þá væntanlega Valgerður sjálf, orkumálastjóri og Landsvirkjunarmenn sem eiga að ákveða hvað skiptir Alþingi máli! Forsætisráðherrann hefur í raun tekið undir þetta sjónarmið sbr. eftirfarandi í Fréttablaðinu 26. ágúst: " Ég treysti fullkomlega því sem fram er komið af hálfu Lnadsvirkjunar og Orkustofnunar…" Nú vill svo til að á Alþingi voru þingmenn sem sjálfir vildu fara í saumana á málum og einnig bera álitamál undir sérfróða aðila sem þeir treystu. Ásetningur Gríms að Alþingi þyrfti að fá frekari upplýsingar kemur skýrt fram í greinargerð hans: "Nú í dag, 14. febrúar 2002, stendur svo til að leggja fyrir Alþingi frumvarp um virkjunina og fá leyfi þingsins til að mannvirkið verði reist. Sökum þess hve undirrituðum finnst þetta verkefni illa undirbúið og alls ekki tækt til ákvarðanatöku, er þessi greinargerð sett saman…" Þetta telja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar að hafi ekki átt erindi til Alþingis. Ekki nóg með það. Þessum upplýsingum var haldið leyndum. Ríkisstjórn sem verður uppvís af öðru eins pólitísku misferli á að fara frá...
25. Ágúst 2006

...Allar götur frá því þessi ákvörðun var tekin hafa legið fyrir mjög sterk rök gegn þessari framkvæmd: Rök sem tengjast náttúru- og umhverfisvernd og rök sem varða efnahagsforsendur. Furðu sætti hve lítinn áhuga fylgismenn framkvæmdanna á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur sýndu þessum röksemdum á meðan framkvæmdirnar voru á ákvörðunarstiginu. Á þessum tíma komu einnig fram efasemdir jarðvísindamanna en það er fyrst nú að í ljós kemur að skýrslum um áhættuþætti sem tengjast virkjunarframkvæmdunum var beinlínis haldið leyndum fyrir Alþingi. Þetta hefur m.a. komið fram í viðtölum við Grím Björnsson, vísindamann á þessu sviði, sem sendi frá sér ítarlega skýrslu um efnið í ársbyrjun 2002. Orkumálastjóri og iðnaðarráðherra fengu skýrsluna en þessir aðilar kröfðust þess að Grímur færi með innihald hennar sem trúnaðarmál!
Þetta er eitt alvarlegasta mál sem upp hefur komið í íslenskum stjórnmálum í langan tíma og hlýtur að...
25. Ágúst 2006
Þú talar réttilega um “pólitískt misferli” vegna þagnarskyldunnar sem sett var á vísindanmenn, sem gagnrýndu Kárahnjúkaframkvæmdina. Í framhaldinu spyrðu hvernig ríkisstjórnin ætli að axla ábyrgð. Það er bara eitt að gera. Fyrrverandi iðnaðarrráðherra, Valgerður Sverrisdótttir á að segja af sér vegna málsins þegar í stað. Helst vildi ég losna við ríkisstjórnina alla, ekki bara vegna þessa máls heldur vegna þess hvernig hún hefur leikið land og þjóð á þeim þremur kjörtímabilum sem hún hefur setið! Kjósendum gefst sem betur fer tækifæri til þess að hreinsa út úr Stjórnarráðinu í Alþingiskosningum næsta vor. Það er hins vegar að mínu mati ...
Haffi
24. Ágúst 2006

...Þegar nú gerist við þessar aðstæður að Orkuveita Reykjavíkur leyfir sér að setja múlband á einn helsta jarðvísindamann þjóðarinnar,
Grím Björnsson, jarðeðlisfræðing og meina honum að tjá sig frekar um Kárahnjúkavirkjun þá eru menn komnir á braut sem er alvarlegri en svo að við verði unað ... Eru menn virkilega orðnir galnir? Á að banna vísindamanni að tjá sig um málefni sem varðar þjóðarhag? Og hvers konar endemis rugl er þetta með samkeppnisaðila? Þetta minnir okkur á hvílíkt glapræði það er að samkeppnis- og einkavæða grunnþjónustu samfélagsins...Nú á að ganga enn lengra og skipa Grími Björnssyni að þegja. Því verður ekki tekið þegjandi enda hafa borgarfulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs þegar skrifað formanni stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur bréf þar sem þessum vinnubrögðum er harðlega mótmælt. Í bréfi
Svandísar Svavarsdóttur og
Árna Þórs Sigurðssonar segir m.a...
23. Ágúst 2006
Lokið er sögulegu þingi Framsóknarflokksins. Magnað var að fylgjast með slagsmálum nokkurra helstu forkólfa flokksins um embætti. Í orði kveðnu, úr ræðustólnum, voru allir kandídatar miklir vinir og allt var þetta, að þeirra sögn, ein allsherjar veisla lýðræðisins. Þó var ekki verið að takast á um neitt nema langanir nokkurra einstaklinga til að skipa stöður og embætti í Framsóknarflokknum. Að vísu verður að segjast eins og er, að eftirsókn í embætti og vegtyllur í Framsókn gengur út á annað og meira, því embætti í æðstu stjórn þessa stjórnmálaflokks kjötkatlanna, er ávísun á ráðherraembætti komist flokkurinn í Stjórnarráðið. Í þessu ljósi verða skiljanlegar yfirlýsingar kandidatanna, bæði þeirra sem unnu og einnig hinna sem töpuðu. Ég kem mjög sterk út úr þessu, sagði Jónína Bjartmarz, sem tapaði fyrir Guðna, nokkuð sem hann tók undir af annáluðu lítillæti: Jónína hefur styrkt stöðu sína við að glíma við mig, sagði landbúnaðarráðherra. Og Siv Friðleifsdóttir, hún kom að eigin sögn...
21. Ágúst 2006

Geir H. Haarde, forsætisráðherra opnaði fyrir umræðu um stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar með yfirlýsingum sínum í fjölmiðlum eftir för sína inn á fórnarlönd Alcoa við Kárahnjúka í boði Ómars Ragnarssonar nú um helgina. Forsætisráðherrann var nýlentur í Reykjavík eftir ferðina þegar hann sagði að vissulega þyrfti alltaf að eiga sér stað ákveðið
“hagsmunamat” þegar stórar ákvarðanir væru teknar. Orðrétt sagði forsætisráðherra í samtali við
Fréttablaðið:
"Ég tel að við höfum tekið hárrétta ákvörðun. Auðvitað er alltaf eftirsjá að landi sem hverfur. Hins vegar er mikið af þessu örfoka land, þótt eitthvað sé um gróin svæði. Ef ég ætti að velja efnahagsáhrifin af virkjuninni eða halda þessu landi myndi ég velja nákvæmlega sama kost og við gerðum á sínum tíma .." Það er nefnilega það.
Geir H. Haarde finnst lítið til um "
örfoka land" og ...Eigum við þá ekki að ræða þennan meinta efnahagsávinning...?
20. Ágúst 2006
Það var glatt á hjalla hjá þeim Framsóknarmönnum nú um helgina. Þeir sem töpuðu voru sagðir meiri stjórnmálamenn en áður (hvað sem það þýðir), sem sé ungmennafélagsandinn sveif yfir vötnunum. Lítið var rætt um pólitík, enda stefnan löngu týnd og reyndar óþörf, völd er grunnur góðrar ráðningarstofu.
Hins vegar var farið með gamanmál, mikið var hlegið af því þegar Jón Sigurðsson lagði túnþökur hjá Guðna Ágústssyni og græna hliðin snéri upp, en sem kunnugt er þá er Framsóknarflokkurinn frægastur fyrir að ...
Runki frá Snotru
18. Ágúst 2006

...Ef flokkarnir þrír sem saman stóðu að ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun og hingað til hafa stutt stóriðjustefnuna með ráðum og dáð, Framsókn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, eru nú komnir með efasemdir um forsendur þessarar stefnu verður að spyrja þá eftirfarandi spurninga:
Eru þeir þá nú orðnir fráhverfir virkjun Jökulsánna í Skagafirði, sem allir þessir flokkar hafa stutt?
Eru þessir flokkar orðnir fráhverfir því að Alcoa verði heimilað að reisa álver á Húsavík eins og allir þessir flokkar hafa stutt?
Eru þeir orðnir fráhverfir því að styðja álversframkvæmdir á Reykjanesi sem allir þessir flokkar hafa stutt?
Hversu djúpt rista sinnaskiptin? Eða eru þetta...17. Ágúst 2006
...Sú spurning vaknar hvort ekki eru til aðrar leiðir en vaxtahækkanir til þess að draga úr verðbólgu. Vaxtahækkanir bitna á öllum einstaklingum og fyrirtækjum, líka þeim sem óþarft er að hræða frá óþarfa lántöku. Væri til dæmis ráð að Seðlabankinn réðist í markvissa og upplýsandi auglýsinga- og kynningarherðferð þar sem við værum frædd um kostnaðinn við lántökur? Í stað þess að fæla okkur frá lántökum með svo háum vaxtakostnaði, að fjárhag alls almennings og margra fyrirtækja er í voða stefnt, þá verði...
17. Ágúst 2006
...

Tvennt vekur athygli í þessum málflutningi. Í fyrsta lagi sú breytta söguskýring að það hafi verið Íbúðalánasjóður en ekki bankarnir sem riðu á vaðið með lækkun vaxta fyrir fáeinum misserum. Hinu gagnstæða var nefnilega lengi haldið fram af hálfu talsmanna viðskiptabankanna til að sýna hve mjög einkavæðingin hefði gagnast lántakendum. Vaxtalækkunin átti að vera bönkunum að þakka. Því fór fjarri. Vaxtalækkun bankanna kom til vegna þess að Íbúðalánasjóður var til staðar. Bankarnir...Hitt sem athygli vekur er sú óskammfeilni að réttlæta hið gegndarlausa okur fjármálastofnana. Lán til íbúðakaupa með 5% vöxtum ofan á vísitölubindingu í verðbólgu sem mælist yfir 8% gengur engan veginn upp nema náttúrlega ef þú hefur 20 milljón króna mánaðarlaun. Hér er um að ræða 13% vexti. Það þýðir að fjármagnskostnaður fyrir 10 milljón króna lán er 1,3 milljónir á ári! Þetta er ...
16. Ágúst 2006

...Sú spurning hefur óneitanlega vaknað hvað vaki fyrir framkvæmdavaldinu með því að fela einkafyrirtæki löggæslustörf? Er þetta gert í sparnaðarskyni? Ef svo er, í hverju felst sparnaðurinn? Er hann á kostnað öryggishagsmuna? Er hann á kostnað kjara og réttinda starfsmanna? Er með þessu ef til vill verið að stíga fyrsta skrefið í átt til einkavæðingar lögreglu, tolls og annarrar öryggisgæslu sem verið hefur á hendi opinberra aðila? Eðlilegt er að sú spurning vakni og þá einnig um þá vegferð sem stjórnvöld kunni að vera á. Ef hægt er að fela einkafyrirtæki almenna löggæslu í Leifsstöð, hvers vegna ekki á götum Reykjavíkurborgar?
Hvað annað gæti skýrt áhugann á einkavæðingu þessarar starfsemi? Við vitum að...
16. Ágúst 2006
Það er alveg hárrétt að virkjanamálin hér í Skagafirði eru á fullri ferð undir yfirborðinu eins og oddviti VG í Skagafirði vekur athygli á og þú tekur einnig undir hér á heimasíðu þinni. Fremur hljótt er farið með þessi áform nú og kæmi mér ekki á óvart að lítið yrði látið á þeim bera fram yfir næstu kosningar. Í bænarskjalinu fræga sem forystumenn Sjálfsstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar hér Skagafirði sendu frá sér sl. vetur lýstu þeir sig reiðubúna til að fórna Jökulánum undir...
Skagfirðingur
14. Ágúst 2006
Ég hef ekki lagt það í vana minn að lesa hinn nafnlausa dálk sem kallst "Staksteinar" í Morgunblaðinu. Þessi skrif sem eru á ábyrgð ritstjóra Morgunblaðsins, Styrmis Gunnarssonar, eru nefninlega gjarnan svo vandræðaleg og full af bulli að óþarfi er að leggja sig niður við að lesa eindálkinn. Þegar maður sér hinsvegar sjaldan Morgunblaðið og eitt eintak berst svo í hendurnar á manni til Berlínar, fellur maður í þá gryfju að lesa blaðið helst upp til agna og svo fór með mig og Moggann frá fimmtudeginum 10. ágúst. Þar fer hinn ónafngreindi Staksteinahöfundur mikinn við að lýsa ógurlegri vandlætingu sinni á "öfgafullum" náttúruverndasinnum (sem eru víst útlenskir í þokkabót). Þetta fólk hefur verið að mótmæla mesta slysi íslandssögunnar af manna völdum: Kárahnjúkavirkjun. Hinn nafnlausi höfundur Staksteina bendir lögreglunni á að ...
13. Ágúst 2006
Ég var að hlusta á mjög áhugaverðan þátt Jóns Ólafssonar og Ævars Kjartanssonar í morgun (sunnud) þar sem fjallað er m.a. um kenningar bókstafstrúarmanna um Ísrael og endalok heimsins og áhrif slíkra kenninga á stefnu Bandaríkjanna og stuðning trúarhópa þar við Ísrael. Þessi þáttur var víst fyrst sendur út 2003 - en er ekki síður aktúell í dag (sjá ruv.is).
Læt einnig fylgja tengil á magnaða grein um þessi mál sem birtist í ameríska tímaritinu Vanity Fair (sem varla telst til byltingarblaða!)...
Jón Þórisson
13. Ágúst 2006
Að undanförnu hafa birst skrif sem ættuð eru innan úr Stjórnarráðinu um stóriðjustefnuna, sem gefa þá mynd að ríkisstjórnin kunni að hafa farið offari. Átakanlegasta birtingarmynd þessa er sú yfirlýsing forsvarsmanna Framsóknarflokksins að flokkurinn hafi síðustu þrjú árin verið umhverfisvænn og ekki viljað skerða strá í íslenskri náttúru! Menn stóðu og göptu við þessi tíðindi, minnugir þess að ekki er lengra síðan en í fyrra að fyrrverandi iðnaðarráðherra, núverandi utanríkisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, fór um landið falbjóðandi íslenskar náttúruperlur fjölþjóðlegum álrisum. Getur verið að eftir alla álþjónkunina á undanförnum árum takist kamelljóninu Framsókn að telja kjósendum í komandi kosningum trú um að flokkurinn sé umhverfisvænn í meira lagi? Hvað sem þessu líður þá fjölgar þeim, sem sjá eftir því að Kárahnjúkasvæðinu skuli hafa verið fórnað og segja að nú sé nóg komið. En er það svo í raun? Hér á síðunni birtist afar áhugaverð grein eftir forsvarsmann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði, Bjarna Jónsson. Hann bendir á að jökulsárnar í Skagafirði séu...
12. Ágúst 2006
...Einn úr hópnum var ritstjóri hjá New York Times, sem marga fjöruna hefur sopið. Hann sagði við mig: „Þið megið ekki láta þetta gerast, þið verðið að upplýsa fólk um hvað er í húfi. Takist það mun aldrei verða af slíkum áformum“. Orð hans voru góð brýning og uppörvun í þeirri baráttu sem hvergi nærri er lokið.
Enn meira forviða urðu þeir að heyra að heimamenn, forystumenn stjórnmálaflokka heima í Skagafirði - Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, - hefðu sent frá sér ákall, bænarskjal til erlenda álrisans Alcoa um að svipta Skagfirðinga Jökulsánum undir stórvirkjanir fyrir álver. Sú bæn þeirra hefur ekki verið afturkölluð. Staðreyndin er sú að það eina sem ennþá hindrar framkvæmdir er formleg heimild sveitarstjórn Skagafjarðar.fyrir Villinganesvirkjun. Öll önnur leyfi eru fengin...
12. Ágúst 2006
...Eins og málum er nú komið styð ég heilshugar og virði tilvist Ísraelsríkis og óska Ísraelum og nágranaþjóðunum friðar, öryggis og velmegunar um alla framtíð. En, ef Ísraelar halda að þeim takist að tryggja og treysta öryggi sitt með yfirgangi og hernaðarofbeldi gagnvart nágrannaþjóðum sínum, þá skjátlast þeim herfilega. Annars er undarlegt hve glámskyggnir menn eru iðulega á bandamenn sína. Þannig eiga forsvarsmenn Bretlands og Bandaríkjanna ekki nógu sterk orð um trúarofstæki leiðtoga Írans. Þeir virðast hins vegar ekki sjá hvað Íran og Ísrael eiga sameiginlegt. Bæði ríkin eru byggð á trúarbrögðum ef ekki trúarofstæki. Ísrael er fyrst og síðast ...
Velvakandi
11. Ágúst 2006
...Nú svo kemur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri með þau rök að fjármagnstekjuskatturinn sé í raun allt að því 20-30% þar sem hann sé reiknaður einu sinni ári og sé greiddur til ríkisins eftir á. Verðbólguálagið sé þar að auki tapa fjármagnseigenda. En ég fæ ekki betur séð en verðbólgan vinni einnig með þeim því þeir greiða mun minna í skatt einmitt vegna verðbólgunnar, þar sem hundraðkallinn var verðmætari í fyrra en hann er núna. Í raun ættu fjármagnseigendur að greiða dráttarvexti af skattinum en ekki öfugt. Það má til sanns vegar færa, að ...
Rúnar Sveinbjörnsson
10. Ágúst 2006

Áfram berast fréttir frá Ísrael, Palestínu og Líbanon þar sem ekkert lát er á ofbeldinu. Mér varð hugsað til ferðar minnar til Palestíunu þegar ég sá í fréttum að minn ágæti félagi og bílstjóri í ferðinni,
Qosai Odeh, hafði verið tekinn höndum fyrir mótmæli við bandarísku ræðismannsskrifstofuna í Jerúsalem og beittur harðræði af hálfu ísraelskra hermanna. Qosai er íslenskur ríkisborgari og væri fróðlegt að vita hvort íslensk stjórnvöld hafi mótmælt handtökunni. Mér varð hugsað til foreldra Qosais, sem ... Þá hafa birst bréf hér á síðunni þar sem skrif mín og annarra, sem hafa verið mjög gagnrýnin í garð Ísraela, eru sögð of einstrengingsleg. En hvað skyldi þeim hinum sömu þá þykja um skrif hins heimsþekkta norska rithöfundar
Josteins Gaarder í
Aftenposten um síðustu helgi undir fyrirsögninni
Guðs útvalda þjóð. Jostein Gaarder segir að Ísrael sé liðin tíð; að við eigum ekki lengur að viðurkenna Ísrael. Ekki verði lengur umflúið að komast að þessari niðurstöðu. Ísrael hafi svívirt viðurkennigu heimsins á tilvist sinni. Ísraelum sé sjálfum um að kenna og eigi þeir ekki að fá frið fyrr en þeir leggi niður vopn. Jostein Gaarder segir stofnum Ísraels hafa verið réttlætanlega í kjölfar Heimsstyrjaldarinnar síðari en með skefjalausu ofbeldi, ofsóknum og rasisma hafi ríkið fyrirgert tilverurétti sínum. Nú sé nóg komið og að menn eigi að tala tæpitungulaust. Grein Josteins er birt hér að neðan á norsku ásamt slóð inn á greinina í Aftenposten. Ég skal viðureknna að ég verð sífellt meira og meira efins um þann rétt sem gömlu nýlenduveldin tóku sér til að stofna ríkið Ísrael með því að hrekja þáverandi íbúa á brott eins og gert var. Ef gyðingar áttu siðferðilegan rétt til stofnunar sjálfstæðs ríkis, eftir Helförina,...
10. Ágúst 2006
...Nú ganga margir fram og hneykslast þessi ósköp sem á undanförnum árum hafa hrósað þessu nýríka útrásarliði og dásamað dugnað þess og snilld. Ég man ekki eftir því að Morgunblaðið eða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi tekið mikið undir með ykkur Vinstrigræningjum þegar þið voruð að andæfa þessari einkavæðingarstefnu og gróðastefnu, sem auðvitað elur svonalagað af sér. Hvað halda menn, að það sé hægt að skrúfa hér þjóðfélagið áfram í átt til græðgis og gróðahyggju á öllum sviðum án þess að fá fylgifiskana með sem eru...
Gunnar
9. Ágúst 2006
Gott er að heyra forsvarsmenn verslunarmanna lýsa yfir áhyggjum af kjaraþróuninni í landinu. En með fyllstu virðingu fyrir því ágæta fólki, langar mig þó til að spyrja hvort það hafi ekki einmitt verið VR sem lagði af kauptaxtakerfið í samningum sínum og hvatti þess að í staðinn ætti hver og einn einstaklingur að semja beint við forstjórann um launin sín og freista þess að ná eins miklu fram einn síns liðs. Hver man ekki eftir auglýsingaherferðinni þar sem kvenfólk var hvatt til að hafa sig vel til fyirir forstjóraviðtalið! Er það ekki nákvæmlega þetta sem síðan hefur gerst? Þeir sem ...
Haffi
9. Ágúst 2006
...Athyglisvert er að næðu tillögur VG fram að ganga mætti ætla að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem hafa fjármagnstekjur nú yrðu undanþegnir skatti, eða eins og segir í greinargerð með frumvarpi VG: “Gera má ráð fyrir að ...rúm 90% einstaklinga og ríflega 70% hjóna sem nú greiða fjármagnstekjuskatt (yrðu) undanþegin skattinum. Þótt hlutfallið sé hátt er hér fyrst og fremst um að ræða smásparnað almennings sem hefur yfirleitt sínar tekjur af launavinnu ... Vinnandi fólk greiðir af launum sínum (36,72%) að samanlögðum tekjuskatti og útsvari ... Tekjur þeirra auðugustu í landinu, þ.e. þeirra sem eiga fjármagnið og þeirra sem þiggja hluta tekna sinna af hlutabréfakaupum eða kaupréttarsamningum, eru aftur á móti mestmegnis fjármagnstekjur. Af þeim greiða þeir, eins og fyrr segir, aðeins 10% skatt." Þetta endurspeglar þann veruleika sem fram kemur í viðtali Morgunblaðsins í dag við Indriða H. Þorláksson, ríkisskattstjóra, um ...
8. Ágúst 2006

Það er ánægjulegt að ferðast um landið og sjá hve mjög ferðaþjónustan hefur verið að sækja í sig veðrið á undanförnum árum. Þrátt fyrir mótbyr vegna stóriðjustefnu stjórnvalda, sem skapað hefur ferðaþjónustunni mjög óhagstæð skilyrði hafa frumkvöðlar á því sviði seiglast áfram og bjóða nú upp á margvíslega þjónustu sem ekki var til staðar fyrir aðeins fáeinum árum. Þá hafa söfn og veitingastaðir tekið miklum framförum. Menn vita sem er að ef menn ætla að pluma sig verða þeir að geta boðið upp á það besta. Nýlega fór ég í nokkurra daga ferð um norð-vestanvert landið en á því svæði er að finna fjölmörg afar vönduð söfn og og sýningar. Má þar nefna ...
8. Ágúst 2006
...Hinn ágætlega haldni kunningi minn sagði að fjárhagsstaða fyrirtækisins væri slík að það þyrfti að spara á öllum sviðum, þá helst hvað laun starfsmanna snerti ásamt þjónustu við farþega. þess vegna væri almennings-sætunum svo þétt staflað saman, að fólk gæti ekki rétt úr sér, jafnvel í langflugi, alla leið frá Keflavík til San Francisco. Í framhaldi af þessari ályktun sagði hann að fyrirtækið ætlaði að ráða Pólverja til að ferma og afferma flugvélarnar til að spara pening.
Ég spurði hann hvort hann virkilega teldi að það skipti sköpum fyrir fjárhagslega afkomu fyrirtækisins að pína niður laun lægst launaða fólkisins í farangursafgreiðslunni hjá fýrirtæki vel að merkja sem greiddi hákörlum sínum hundruð miljóna á ári og jafnvel einum þeirra sem hafði ekki starfað nema í nokkra mánuði, vel yfir hundrað miljónir, bara fyrir að hætta, utan...
Helgi
7. Ágúst 2006
Ég var að lesa ágæta grein Þorleifs Gunnlaugssonar á síðunni þinni. Ég er sammála flestu sem þar kemur fram viðvíkjandi innrás Ísraelsmanna í Líbanon, morðunum þar og skemmdaverkunum, í skjóli Bandaríkjanna og Bretlands.
Hryðjuverk Síonista í skjóli ríkistjórna Bandaríkjanna og Englands eiga sér engar málsbætur... Það má vera kaldranalegt að segja sannleikann, en hann er sá að við Íslendingar eigum nóg með sjálfa okkur. Við getum lítið gert annað en að gaspra upp í vindinn gagnvart hörmungunum erlendis og staðreyndin er sú, að margur potturinn er brotinn hjá okkur sjálfum sem okkur ber að laga, áður en við förum að segja öðrum þjóðum fyrir verkum.
Úlfljótur
7. Ágúst 2006
...En hvaða ályktanir er hægt að draga af deilunni um fjölmðilafrumvarpið? Í fyrsta lagi, að sú ríkisstjórn sem nú situr er reiðubúin að hagræða sannnleikanum til að ná fram markmiðum sínum. Í öðru lagi, hve ótrúlega fylgispekt stjórnarmeirihlutinn á Alþingi sýnir foringjum sínum þegar fyrirskipað er að allir gangi í takt. Ég trúi því ekki enn að allir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafi í reynd talið málatilbúnað þeirra Davíðs og Halldórs varðandi málskotsrétt forseta, sannfærandi. Og hvað með Kárahnjúka, einkavæðinguna, vatnið, öryrkjamálið, gagnagrunnsmálið, Ríkisútvarpið...Hversu oft hefur sannfæring og samviska ráðið för og hve oft flokkssvipan? Í þriðja lagi hve...
6. Ágúst 2006
Fyrir stuttu síðan kaus ég vinstri græna og var ánægður með það, vildi sjá ykkar sem leiðandi afl í borginni. Sjálfur er ég ekki mikið pólitískur, en mér leist bara vel á flokkinn og hugmyndir flokksins í mikilvægum málum. En að undanförnu hef ég verið að fylgjast með skrifum þínum og ummælum vinstri manna á því ástandi sem ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs. Ég sé mikið eftir að hafa kosið flokkinn þinn eftir að ég sé hversu einhliða skoðanir ykkar eru á ástandinu þar. Ég hef verið í mörg ár mikill vinur Ísraels, en ég tek það fram að...
Steini
6. Ágúst 2006

...Ástæða er hins vegar til þess að óttast að eitthvað verra komi í staðinn; húsnæði sem reist er með eitt í huga: Að byggja eins stórt og eins ódýrt og hægt er. Hvað um það, ég neita því ekki að mér kom á óvart – óþægilega – þessi samanburður við austur-evrópskar iðnaðarborgir um miðbik síðustu aldar. Getur verið að ...
5. Ágúst 2006

Hljómsveitin Sigurrós hefur unnið hug og hjörtu landsmanna. Ég hef lengi verið í hópi aðdáenda hennar. Sigurrós kynntist ég á milli svefns og vöku...Tónleikahald Sigurrósar víðs vegar um Ísland nú í sumar náði eki hámarki frammi fyrir mannfjöldanum á Klambratúni í Reykjavík, eins ágætt og það var, heldur við Snæfell. Þar lék Sigurrós fyrir fjöllin, sólina og gróðurinn. Líka fólk; fólk sem vill vera eitt með náttúrunni – í sátt við hana, í faðmi hennar. Þessum tilfinningum lýsir Sigurrós betur en flestir aðrir. Þess vegna á hún nú hljómgrunn með þjóðinni...
5. Ágúst 2006
Það var hárrétt ábending hjá Jóni Bjarnasyni, alþingismanni, í kvöldfréttum RÚV, að það er iðulega – kannski oftast – við fjárveitingavaldið að sakast þegar stofnanir fara fram úr fjárlögum en ekki við þær sjálfar eða stjórnendur þeirra. Ég starfa á sjúkrahúsi og hef ég fylgst af forundran með umræðunni að undanförnu um meint ábyrgðarleysi ríkisstofnana vena framúrkeyrslna. Það er líka rétt, sem fram kom í viðtalinu við Jón Bjarnason að stundum er fjárveiting skorin við nögl af yfirveguðum pólitískum ásetningi. Það var til dæmis gert á mínum vinnustað, Landspítalanum. Um það er ég sannfærð. Þetta var gert til þess að...
Ein starfandi á LHS
4. Ágúst 2006
...Er ekki hægt að beita Bandaríkin viðskiptaþvingunum? T.d. með því að hætta að kaupa kók. Mætti ekki flytja íbúa Ísraels til USA...?
Sólveig
4. Ágúst 2006
Birtist í Fréttablaðinu 03.08.06.
...Það getur vel verið að á Fréttablaðinu þyki þetta fyndið. Okkur sem sóttum fundinn þótti hann hins vegar vel mannaður, þótt það veki óneitanlega áhyggjur hvílíkt sinnuleysi margir sýna þeim stríðsglæpum sem heimurinn verður nú vitni að í Líbanon og Palestínu og læt ég þá liggja á milli hluta afstöðu hinna sem telja ástæðu til að hafa þessi mál í flimtingum. Með því að gera lítið úr mótmælum sem þessum, er Fréttablaðið að taka afstöðu. Að vísu með hinum lítilmannlegu vopnum, hroka og kaldhæðni, en afstöðu samt...
3. Ágúst 2006

Tíu ár eru síðan Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti Íslands. Af því tilefni hafa verið viðtöl við hann í fjölmiðlum. Þar hefur hann sagt margt ágætt. Tvennt hef ég þó staldrað við þar sem ég er honum ósammála, meira að segja mjög ósammála. Í fyrsta lagi hef ég miklar efasemdir um þá áherslu, sem hann leggur á völd embættis síns. Vald forsetaembættisins er honum greinilega ofarlega í huga. Í viðtali í einhverjum fjölmiðlinum sagði Ólafur Ragnar að hvergi á byggðu bóli hefði forseti eins mikið
"frelsi og svigrúm" og hann hefði sjálfur. Hann hefði umboð sitt frá þjóðinni beint og milliliðalaust. Ég spyr á móti, umboð til hvers? Því fer afar fjarri að forsetinn hafi umboð til að fara sínu fram að eigin geðþótta, frelsi hans og svigrúmi eru nefnilega settar mjög strangar skorður. Þær skorður markast ...
3. Ágúst 2006
Þorleifur Gunnlaugsson, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík hvetur í grein sinni hér á síðunni að stjórnmálasambandi verði slitið við Ísrael og viðskiptabann sett á landið. Ég vil taka undir þetta, það er orðið löngu tímabært. Við verðum að sýna það í verki að við erum á móti drápum á saklausu fólki og eyðileggingunni sem fylgir stríði Ísraels á nágrannaríki sín. Frá því Ísrael var stofnuð hefur ríkisstjórn þess hvorki farið eftir ályktunum Sameinuðu þjóðanna, né alþjóðalögum. Það þýðir ekki að taka alltaf á brotum Ísraela með silkihhönskum. Eigum við að að horfa upp á ...
Salmann Tamimi
3. Ágúst 2006
Morgunblaðið stærir sig af því að greina á milli frétta annars vegar og ritstjórnarpistla hins vegar. Ég skal viðurkenna að stundum tekst blaðinu þetta bærilega. Það þýðir hins vegar að mótsagnirnar í Mogga verða oft tröllvaxnar. Það gerist þegar skoðanir blaðsins eru mjög á skjön við veruleikann. Fréttir af nýlegum fundi við sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík voru myndarlegar og réttar – meira aðsegja settar á forsíðu – reyndar eins og tilefni var til. Ég tók líka eftir því að Morgunblaðið gerði mjög vel grein fyrir bréfi þingflokks VG til forseta ísraelska þingsins nýlega, þar sem þið mótmæltuð stríðsglæpum Ísraela. Morgunblaðið skyldi vel að það var verulega fréttnæmt að íslenskur þingflokkur gripi til þessa ráðs. Auðvitað mættu fréttir Morgunblaðisins af stríðsrekstri Ísraela vera gleggri en þar er blaðið á sama báti og flestir vestrænir fjölmiðlar, sem óneitanlega eru mjög hallir undir Ísraela. Þegar kemur að skoðunum blaðsins í leiðurum og Staksteinaskrifum blasir við miklu einleitari mynd. Skoðunum blaðsins verður varla lýst öðru vísi en...
Haffi
2. Ágúst 2006
Ég fletti upp í dagatalinu mínu til þess að sjá hvort við værum einhvers staðar nærri 1. apríl, þegar ég las um það í blöðum fyrir nokkrum dögum að hingað til lands hefði komið hópur þingmanna úr allsherjarnefnd fulltrúadeildar japanska þingsins til að kynna sér einkavæðingu á Íslandi og læra af Íslendingum um hvernig ætti að bera sig að! Og hverjir skyldu lærimeistararnir hafa verið? Jú, það var helbláir ráðuneytisstarfsmenn og starfsmenn einkavæðingarnefndarinnar, sem sett var á laggirnar í umboði þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Skyldu japönsku þingmennirnir hafa fengið að hitta S-hópinn? Skyldi þeim hafa verið boðið á málverkasýningu Björgólfs Landsbankaeiganda, þar sem hann sýnir Kjarvalsmálverk, sem hann ...
Sunna Sara
2. Ágúst 2006

Þorleifur Gunnlaugsson, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík skrifar umhugsunarverða grein hér á síðuna þar sem hann hvetur til þess að stjórnmálasambandi verði slitið við Ísrael og viðskiptabann sett á landið.
Þorleifur minnir á viðskiptabannið sem sett var á Suður-Afríku á dögum aphartheidstefnunnar:
" Í Ísrael situr engu minni ofbeldisstjórn en kynþáttastjórnin í Pretoríu, sem fór með stjórn Suður-Afríku. Ég bið menn um að íhuga þetta vel – vel en hratt. Svo hrikalegt er ástandið nú fyrir botni Miðjarðarhafs, svo skelfilegt er ofbeldið, að engan tíma má missa. Okkur hreinlega ber að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma þeim, sem fyrir ofsóknunum verða, til hjálpar."
Undir þetta skal tekið. Ég setti fram svipaðar vangaveltur vorið 2004. Til sanns vegar má færa að ástandið sé nú orðið mun verra en það var þá og full ástæða til að íhuga þennan kost vel. Sjálfum fyndist mér að fyrsta skrefið eigi að vera...
2. Ágúst 2006
Birtist í Morgunblaðinu 01.08.06.
...Í bréfi Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, er uppi sama framsetningin og Bandaríkjastjórn og sú ísraelska leggja mest upp úr: "Réttur" Ísraels til að verja sig. Þessi "réttur" er rækilega tíundaður í hinu "harðorða" bréfi. Hvergi er minnst á "rétt" Palestínumanna, hvorki til að verja sig né hafa sjálfsforræði yfir eigin málum. Nýkjörin stjórn Palestínu hefur þannig ekki fengið leyfi til að starfa, þingmenn og ráðherrar verið fangelsaðir af ísraelska hernámsliðinu, skatttekjum haldið frá lýðræðilega kjörinni stjórn þannig að hún hefur ekki getað rekið velferðarþjónustu og aðra samfélagsþjónustu. Allt þetta og utanríkisráðherra Íslands á varla nógu sterk orð til að lýsa vináttu Íslands í garð Ísraelsríkis og leyfir sér þar í ofanálag að segja í þessu samhengi að "aldrei (sé) einum að kenna þegar tveir deila", eins og Valgerður Sverrisdóttir gerði í viðtali við Sjónvarpið þegar bréfið "harðorða" var til umfjöllunar í fréttum. Nei, utanríkisráðherrann þarf ekki að ...
1. Ágúst 2006
...Tilefni þessara skrifa minna er þó ekki að hneykslast á þeirri ríkisstjórn, sem stýrir nú landi okkar, þótti til þess sé full ástæða, hvað þá að hvetja til hernaðarárása. Ég vildi einfaldlega setja fram spurningu sem mér finnst sjálfum einhlítt að við svörum játandi. Er um annað að ræða en að slíta þegar í stað stjórnmálasambandi við Ísrael og hvetja til þess að viðskiptabann verði sett á landið? Þetta var gert gagnvart Suður-Afríku á sínum tíma með góðum árangri. Í Ísrael situr engu minni ofbeldidsstjórn en kynþáttastjórnin í Pretoríu, sem fór með stjórn Suður-Afríku. Ég bið menn um að íhuga þetta vel – vel en hratt. Svo hrikalegt er ástandið nú fyrir botni Miðjarðarhafs, svo skelfilegt er ofbeldið, að engan tíma má missa. Okkur hreinlega ber að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma þeim, sem fyrir ofsóknunum verða, til hjálpar. Framferði Síonistanna í Ísrael hefur löngum ofboðið siðmenntuðu fólki en nú keyrir um þverbak. Grímulaus fjöldamorð og mannréttindabrot af versta tagi gera endanlega útaf við vonir manna um að hægt sé að semja um sanngjarnan frið við Ísraelsríki. Þjóðir heims verða nú að beita öllum þeim þvingunaraðgerðum sem í þeirra valdi eru til að neyða Síonistana til að draga í land. Íslendingar geta ekki grátið yfir gyðingaofsóknum nasista, aðskilnaðarstefnu í Suður-Afriku eða ...
31. Júlí 2006
Birtist í Morgunblaðinu 30.07.06.
...Jafnframt er haldið uppi stöðugum manndrápum og ofbeldisaðgerðum. Allt þetta gerist eftir að Hamas samtökin, sem kjörin voru lýðræðislega til valda, höfðu einhliða virt vopnahlé í 16 mánuði. Í kjölfar þessara atburða sauð upp úr og bæði Hamas og Hizbollah í Suður-Líbanon gripu til vopna. Bæði Bandaríkin og Evrópusambandið höfðu stutt Ísraela í ofbeldinu og eftir að til átaka kom, var viðkvæðið: “Ísraelar hafa rétt til að verja hendur sínar.” Gott ef ekki heyrðist eitthvert taut um þetta í Stjórnarráði Íslands líka, frá umsækjendunum um fulltrúasæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna....
30. Júlí 2006
Birtist í Fréttablaðinu 29.07.06.
...Ályktun 377, kom upphaflega til sögunnar árið 1950 að frumkvæði Bandaríkjastjórnar, sem leitaði leiða til að komast framhjá neitunarvaldi Sovétríkjanna í Öryggisráði SÞ. Það var reyndar Bandaríkjastjórn, sem nýtti sér þessa aðkomu í Súezdeilunni vegna neitunarvalds Breta og Frakka í ráðinu. Ályktun 377 gengur einnig undir heitinu Sameining í þágu friðar, Uniting for peace. Í ályktuninni er minnt á þá skyldu Sameinuðu þjóðanna og allra stofnana þeirra að...
28. Júlí 2006
Ávarp fyrir framan bandaríska sendiráðið á opnum fundi sem Herstöðvaandstæðingar boðuðu til.
...Nú þarf að reisa kröfu á hendur Ísraelum og bakhjarli þeirra, Bandaríkjunum: Stöðvið stríðsglæpina, stöðvið mannréttindabrotin. Heimurin krefst þess að vopnin verði tekin af fólki, sem ekkert kann annað en að drepa hvert annað.
Ísland á að krefjast þess að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna verði kallað saman þegar í stað svo stöðva megi ofbeldið. Sýnum að okkur er alvara; að við viljum aðgerðir. Enga bið. Okkar krafa er...
28. Júlí 2006
Ég var á útifundinum við sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi í kvöld og klappaði þegar þú fagnaðir því að ríkisstjórn Íslands krefðist vopnahlés í Líbanon. Auðvitað fögnuðum við þessu. En svo fór ég heim og hlustaði á fréttir. Frétttastofa Sjónvarpsins sagði að utanríkisráðherra hefði sent utanríkisráðherra Ísraels harðort bréf og Valgerður, utanríkisráðherra, sagði að vissulega væri "langt gengið" með þessu bréfi. Hvílkt endemis rugl og hjá fréttastofu Sjónvarps er þetta sljóleiki og dómgreindarleysi eða hrein fréttafölsun. Þegar bréf ríkisstjórnarinnar er skoðað fer því afar fjarri að bréfið sé harðort. Formúleringin er hin gamalkunna, að Ísrael hafi rétt til að verja sig; Íslendingar skilji að staðan "sé flókin" og að það sé bráðnauðsynlegt að Ísraelar verji sig..."vital need of Israel to defend itself". Engu að síður séu aðstæður oðnar þannig fyrir hundruð þúsunda að Ísraelar eru hvattir til að "leita leiða" til að koma á vopnahléi...
Haffi
27. Júlí 2006
Mikilvægt er að sem flestir mæti fyrir framan bandaríska sendiráðið, föstudaginn 27. júlí, klukkan hálf sex. Samtök herstöðvaandstæðinga efna til fundarins og eiga samtökin lof skilið fyrir að skapa vettvang fyrir mótmæli gegn innrás Ísraela í Líbanon og því skefjalausa ofbeldi sem Ísraelar beita Palestínumenn á herteknu svæðunum í Palestínu. Allt þetta komast Ísraelar upp með ...Söfnum liði, mætum til þessa baráttufundar og allra þeirra funda sem boðað verður til sem mótmæla ofbeldinu og tala máli alþjóðasamninga og friðsamlegra lausna....
27. Júlí 2006
Þakka greinaskrifin um ofbeldið gegn Palestínumönnum og innrásina í Líbanon. Sérstaklega var ég ánægður með bréf þingflokks VG til forseta ísraelska þingsins. Það var kominn tími til að láta í sér heyra vegna ofbeldis ísraelska hersins gegn saklausu fólki í Palestínu og Líbanon. Er ekki kominn tími á útifund og það meira að segja...
HH
26. Júlí 2006

...Ekki man ég hvort þingmenn Samfylkingarinnar, sem gagnrýnt hafa niðurskurð til vegamála að undanförnu hafi horft í eigin barm og spurt: Hvar var ég þegar atkvæði voru greidd um Kárahnjúkavirkjun? Ekki veit ég hvort
Dagur B. Eggertsson hafi spurt sjálfan sig þessarar spurningar. Staðreyndin er nefnilega sú að þegar þessar ákvarðanir voru teknar var Vinstrihreyfingin grænt framboð ein um það á Alþingi að vara við nákvæmlega því sem nú er að gerast. Hið sama var uppi á teningnum í stjórn Reykjavíkurborgar...
26. Júlí 2006
Hvernig líst ykkur á að hefja aðildarviðræður um kosti og galla evru og sjá svo til eða vitið þið kannski allt um evru...?
Jón Þórarinsson
25. Júlí 2006
Sú var tíð að mest lá á því í íslensku samfélagi að selja Lyfjaverslunina sem við þegnarnir áttum - skuldlausa. Gengu ákveðin öfl (Sjálfstæðisflokkurinn) ötullega fram í því að koma gjörningi þessum í höfn. Beitt var hinum ódauðlegu, varanlegu og einu rökum frjálshyggjunar: "Ríkið á ekki að vera að vasast í... bla bla bla". Engum vörnum var við komið, enda rökin afar sterk og greindarlega fram sett eins og ævinlega úr þeirri áttinni. Helst var að skilja að þessi Lyfjaverslun okkar væri helsti dragbítur á framfarir og ...
Guðmundur Brynjólfsson
25. Júlí 2006

...Augu heimsins beinast augljóslega fyrst og fremst að atburðum innan Líbanon, afleiðingum h
ernaðarárásanna á landið. Í fréttum fer minna fyrir h
ernaðarofbeldinu sem samhliða viðgengst af hálfu ísraelska hernámsliðsins víðs vegar á herteknu svæðunum innan Palestínu. Þar verður hvert svæðið á fætur öðru, hver bærinn og hver borgin á fætur annarri fyrir barðinu á ísraelska hernum. Aðferðafræðin er ætíð hin sama. Mikilvægar stjórnarbyggingar rústaðar, íbúðarhús eyðilögð og ráðist á fólk, að því er virðist af handahófi, til að skapa skelfingu og ringulreið. Fyrir hálfu öðru ári ferðaðist ég um herteknu svæðin ásamt þeim...
24. Júlí 2006
...Hvað er Morgunblaðið að fara með þessari yfirlýsingu? Á hvern hátt getur það hugsanlega flokkast undir sérhagsmunagæslu að vilja tryggja sem allra best gæði þeirrar matvöru sem er á boðstólum í landinu? Er það ekki spurning um almannahagsmuni? Gildir ekki hið sama um áherslu BSRB á hollustu og framleiðsluöryggi? Er það ekki spurning um almannahag? Og hvað með byggðasjónarmið og atvinnuöryggi fólks sem starfar í landbúnaði og tengdum greinum; er svo komið á Íslandi, að ekki megi lengur minnast á slíkt án þess að vera sakaður um ámælisvert hagsmunatal og að ganga erinda sérhagsmuna?
Frést hefur að Morgunblaðið sé að flytja höfuðskrifstofur sínar. Af þessum skrifum blaðsins mætti halda að ritstjórnin væri að flytja af landi brott og hefði sagt sig úr lögum við ...
20. Júlí 2006
Það gladdi mig og ég fann til stolts að heyra viðtal við Laufey Erlu Jónsdóttur landvörð í Kverkfjöllum í útvarpsfréttum í gærkveldi og einnig á baksíðu Morgunblaðsins í dag. En flaggað var í hálfa stöng víða á hálendinu í gær. 19. júlí 2002 er dapur dagur í sögu þjóðarinnar en þá skrifuðu íslensk stjórnvöld og erlendi álrisinn Alcoa undir viljayfirlýsingu um byggingu álvers á Reyðarfirði og mestu náttúruspjöll Íslandssögunnar af mannavöldum, Kárahnjúkavirkjun var sett af stað." Við viljum tjá sorg okkar vegna landsins sem verður fórnað undir virkjanir á hálendinu“ sagði Laufey Erla Jónsdóttir, sem hefur á hverju ári síðan þá tjáð náttúrunni tilfinningar sínar og annarra landvarða með þessum hætti.
Mér er líka misstæð barátta Vinstri grænna á Alþingi gegn þessum hervirkjum , en þá stóðu þið einir flokka með náttúru Íslands gegn Kárahnjúkaflokkunum, Framsókn, Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu sem allir studdu hermdarverkin við Kárahnjúka hvort sem var á Alþingi eða í Borgarstjórn Reykjavíkur. Laufey minntist á að ..
.Hafdís Guðmundsdóttir
20. Júlí 2006

Ég tek undir með Hafdísi Guðmundsdóttur í bréfi sem birtist hér á heimasíðunni um hve gleðilegt það alltaf er að heyra í fólki sem þorir að standa á sannfæringu sinni. Hafdís vitnar í viðtal við Laufey Erlu Jónsdóttur, sem ásamt fleiri landvörðum, þurfti að sæta ofsóknum af hálfu yfirvalda þegar þau flögguðu í hálfa stöng 19. júlí árið 2002. .. Hér vísar hún í Kárahnjúkavirkjun en 19. júlí árið 2002 var undirrituð viljayfirlýsing um að ráðist yrði í þá framkvæmd. Í bréfi sínu rifjar Hafdís upp hlut ráðherra Framsóknarflokksins í aðförinni að landvörðunum og einnig að hollt sé að gleyma því ekki að allir stjórnmálaflokkar á Alþingi, að undanskilinni Vinstrihreyfingunni grænu framboði, hafi stutt Kárahnjúkavirkjun...
20. Júlí 2006
Birtist í Morgunblaðinu 19.07.06.
...Óumdeilt er að íslensk landbúnaðarvara er í hágæðaflokki og væri það mikil skammsýni að grafa undan henni með því að veikja undirstöður hennar á markaði þar sem sveiflukennt verðlag réði úrslitum. Undirboð og tímabundnar verðsveiflur gætu haft varanlega neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað, sem er þegar allt kemur til alls, smár og viðkvæmur og þarf á ákveðnum stöðugleika að halda. Íslenskur landbúnaður er miklu mikilvægari í menningarlegu, félagslegu og atvinnulegu tilliti en umræðan, eins og hún birtist tíðum þessa dagana, gefur tilefni til að ætla. Þröng verðlagsnálgun er í reynd gamaldags og skammsýnt viðhorf...
19. Júlí 2006

Krafturinn í íslenskum listamönnum er með ólíkindum. Á nánast öllum sviðum listalífsins eigum við á að skipa verulega færu fólki – í sumum tilvikum afburðalistamönnum...Almennur áhugi á listum og menningu örvar ungt fólk til dáða. Gróskan elur þannig af sér grósku...En það er ekki nóg að kveikja áhugann með verðandi listamönnum. Hann verður að vísu til þess að hæfileikafólkið finnst og er virkjað, en að sjálfsögðu þurfa hæfileikarnir að vera til staðar! Það er þarna sem ég hef staðnæmst í þönkum mínum; yfir því hve magnaðri sveit hæfileikafólks í listalífinu við eigum á að skipa. Á þetta vorum við sem sóttum tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar rækliega minnt í gær þegar Þorbjörn Björnsson, baritónsöngvari söng þar fyrir fullu húsi...
19. Júlí 2006
...Eftir stendur þá spurningin, hver er það sem tekur hina pólitísku ákvörðun? Í forsvari í fjölmiðlum hefur verið Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli. Tók flugvallarstjórnin þessa ákvörðun eða var það utanríkisráðherrann, en vel að merkja þá heyrir Keflavíkurflugvöllur undir utanríkisráðuneytið og er Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra því ábyrg fyrir því sem þarna er að gerast fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, sem að sjálfsögðu endanlega ber ábyrgðina. Sú spurning sem óneitanlega vaknar er hvort hér sé á ferðinni þjónkun við einakfyrirtæki, sem vilja hagnast á þessari starfsemi. Það hefur verið kallað einkavinavæðing. Á henni er þjóðin búin að fá sig fullsadda...
19. Júlí 2006
Gott er að sjá að heimasíðan er aftur komin í gang en aldrei þessu vant kom ekkert inn á hana í nokkra daga. Ég man ekki eftir því að áður hafi þetta gerst! Ég saknaði þess að sjá ekki ný skrif á ogmundur.is, því það er orðin föst rútína hjá mér að opna síðuna með morgunkaffinu. Hvað um það, þá er eitt sem veldur mér heilabrotum og hlýtur svo að eiga við um fleiri. Út kom skýrsla formanns matvælaverðsnefndar eins og alþjóð veit. Að baki henni stóð hann einn en ekki nefndin sem hann stýrði. Hins vegar fóru nefndarmenn og fulltrúar þeirra samtaka sem að baki þeim standa að tjá sig um málefnið. Skyldi vera jafnræði með þeim og sjónarmiðum þeirra gert jafnhátt undir höfði í fjölmiðlum? Aldeilis ekki. Þeir sem hafa uppi gamla...
Grímur G.
18. Júlí 2006
...Lágkúran í þessu máli, er auðvitað fólkið og stofnanirnar sem eru á bakvið ódæðið og skaffa sér ofurlaun fyrir ómakið (sem er rannsóknarefni útaf fyrir sig), og síðan borgar- og landsyfirvöld sem leyfa þetta. Siðferði þessa fólks lýsir sér best þegar það er að gera lítið úr hræðilegri spilavítisfíkninni. Að það skuli vera mennta- og líknarstofnannir sem notaðar eru til þessa siðferðisglæps, sem ætti hiklaust að vera lagalegur glæpur, er svívirðilegt. Ögmundur, ég þakka Helgu, Ágústi og þér fyrir baráttuna gegn voðamáli spilavítiskassanna, og leyfi mér um leið að benda á þá hræðilegu spillingu sem hefur yfirleitt grafið um sig í þjóðfélaginu undanfarin ár, á flestum sviðum, ekki síst það sem Hjörtur Hjartarson bendir á í pistli sínum, á síðunni þinni. Það er vert að stjórnmálamenn fari að hugsa um eitthvað annað en sjálfa sig, að maka krókinn og ...
18. Júlí 2006

...Einnig hafa mér borist umvandanir og varnaðarorð þar sem hvatt er til hófsemi í umræðunni. Allt er þetta vel meint. Af viðbrögðum fólks úr báðum herbúðum ræð ég hins vegar hve bælt vandamál er hér á ferðinni. Fólk sem haldið er sjúklegri spilaáráttu, og þá ekki síður aðstandendur þeirra, vilja umræðu um vandann, þótt þeir eigi illmögulegt að taka þátt í henni; þeir sem fá afraksturinn í vasann vilja helst að um vandann sé þagað. Háskóli Íslands og líknar- og hjálparstofnanir á borð við Rauða kross Íslands, Landsbjörg og SÁÁ, sem hagnast á spilavítisélum, verða að axla ábyrgð í þessu efni og það gera þau á þann hátt einan að segja sig algerlega frá fjáröflun af þessu tagi. Augljóst er að það ætlar að reynast þessum aðilum þrautin þyngri. Í reynd eru það tveir aðilar sem háðir eru spilafíkninni: Sá sem spilar og hinn sem hagnast á sjúkleika hans. Að sumu leyti er síðara hlutskiptið...
10. Júlí 2006

Fyrirlesararnir frá PSI, Jurgen Buxbaum og Alan Leather.
Á föstudaginn, 7. júlí, fór fram á vegum BSRB umræðufundur um opnun vinnumarkaða bæði í Evrópu og á heimsvísu. Fjölmenni hlýddi á tvo fyrirlessara frá Public Services International – Samtaka launafólks í almannaþjónustu – sem BSRB á aðild að. ... Jürgen Buxbaum dró upp mjög áhrifaríka mynd af þjóðfélögum í vestanverði álfunni sem byggju við ákveðið grunnkerfi hvað varðar félagsþjónustu, stöðu verkalýðsfélaga, lýðréttindi og lýðræðislegar stofnanir og bar hana saman við austanverða álfuna eftir hrun kommúnismans ... Niðurstaðan hefði orðið óheftur markaðsbúskapur með tilheyrandi misskiptingu og örbirgð hjá drjúgum hluta samfélagsins. Alan Leather setti fleiri drætti inn í þessa mynd – vék að flutningi starfsfólks í heilbrigðisgeiranum bæði innan Evrópu og á heimsvísu. Fram kom að í reynd væru þróunarríkin að fjárfesta í ...
9. Júlí 2006
Birtist í Morgunblaðinu 08.07.06.
Föstudaginn 30. júní ritar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni "Verðum að leita allra leiða". Greinin er svargrein við skrifum mínum þar sem ég gagnrýni ásetning ráðherrans um einkaframkvæmd í ýmsum vegaframkvæmdum sem framundan eru ... Staðreyndin er því miður sú að á seinni árum hefur einkavæðing - hvort sem hún kallast einkaframkvæmd eða öðrum nöfnum - verið á dagskrá svo mjög að þau hagkvæmnissjónarmið sem ráðherrann kallar eftir hafa verið látin lönd og leið...
8. Júlí 2006
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hefur sent forseta ísraelska þingsins, Daliu Itzik, bréf þar sem mannréttindabrotum í Palestínu af hálfu ísraelska hernámsliðsins er harðlega mótmælt, jafnframt því sem óskað er eftir liðsinni þingsins við að fá palestínska þingmenn og ráðherra, sem hafa verið hnepptir í varðhald setta lausa. Fangelsun þingmanna er táknræn um það virðingarleysi sem ísraelska ríkið sýnir lýðræðinu. Bréf þingflokks VG fylgir hér að neðan...
8. Júlí 2006
Birtist í Fréttablaðinu 07.07.06.
Það er ekki nóg með að vestræn ríki og þá einkum Bandaríkin og Evrópusambandið horfi aðgerðarlaus upp á skefjalaust ofbeldi ísraelska hernámsliðisins í Palestínu, þau eru beinir þátttakendur í ofbeldinu...Til sanns vegar má færa að í mannlegu tilliti skiptir ekki máli hver það er sem verður fyrir ofbeldi. Það hefur hins vegar táknræna þýðingu þegar það nú gerist að ráðherrar og þingmenn Palestínumanna eru numdir nauðugir á brott af ísraelska hernámsliðinu og haldið föngnum. Slíkt er táknrænn máti að svívirða lýðræðið. Skyldi vera nokkur von til þess að ríkisstjórn Íslands hafi sig upp af hnjánum og sýni þann manndóm að mótmæla þessum mannréttindabrotum í Palestínu, glæpsamlegri hóprefsingu á saklausu fólki? Þeir sem styðja ofbeldið eru samsekir. Spurning er hvort það eigi ekki einnig við um hina sem þegja. Okkur ber öllum siðferðileg skylda til að...
8. Júlí 2006
Las grein þína hér á síðunni um spilakassana, ekki þá fyrstu. Mér finnst rosalega sterkt orðalag hjá þér að "frábiðja sér ræðuhöld um ágæti Rauða krossins, Landsbjargar og HÍ á meðan þessir aðilar hafa fé af veiku fólki". Við þessa upptalningu mætti svo væntanlega bæta SÁÁ að ógleymdri íþróttahreyfingunni eins og hún leggur sig (eða er Lottóið og Getraunirnar þar sem aldurstakmarkið er ekkert undir aðra sök seld heldur en kassarnir)? Stóra spurningin er, og henni hef ég aldrei heyrt þig svara og kalla því eftir því hér...
Tumi Kolbeinsson
7. Júlí 2006
Mér þótti gott að sjá bréfið frá Ágústi um spilafíknina. Sjálf þekki ég þennan vanda vel því sonur minn er háður þessum fjanda. Það er hárrétt hjá Ágústi að þetta friðþægingartal þeirra sem reka spilakassana um að flestir sem spili geri það fyrir lítinn pening og sjálfum sér að skaðlausu, er algerlega út í hött. Það er þessum aðilum til vansa að gera út á veikt fólk og get ég skrifað upp á hvert einasta orð þitt Ögmundur í grein þinni hér á síðunni um fjármögnun Háskóla Íslands. Ég hef enga þolinmæði fyrir þetta tal um “háskóla í fresmtu röð” ef hann á að komast þangað með því að...
Helga
6. Júlí 2006

Og nú spyr ég: ætlar Háskóli Íslands sér að halda inn í framtíðina, þar sem hann vill skipa sér í fremstu röð, á kostnað þessa fólks? Ætlar hann áfram að nýta sér neyð spilafíkla sjálfum sér til fjárhagslegs ábata? Og hvað um Rauða kross Íslands eða Landsbjörg? Stendur þessum aðilum á sama hvaðan þeir draga sér fé í bú? Ég segi fyrir mitt leyti að fremur vil ég að Háskóli Íslands hafni í 101., jafnvel 500. sæti á meðal rannsóknarstofnana heimsins en sem "háskóli í fremstu röð", rekinn á kostnað spilafíkla. Ég vil leyfa mér að frábiðja ræðuhöld um ágæti Rauða krossinns, Landsbjargar eða Háskóla Íslands á meðan þessir aðilar leyfa sér að hafa fé af veiku fólki. Það er nefnilega rétt sem Ágúst segir: "Sem virkum spilafíkli fer það mest í taugarnar á mér þegar f...
6. Júlí 2006
Í sambandi við grein þína um starfslokagreiðslu fyrrum forstjóra Straums-Burðaráss, langar mig að benda á eftirfarandi: Hugsanlegt er að deyfð fólks gagnvart málinu megi meðal annars rekja til fulltrúa þess á Alþingi. Á Alþingi tóku forystumenn stjórnarandstöðunnar höndum saman við þá Halldór og Davíð og sviku út forréttindi sjálfum sér til handa. Eftirlaunaforréttindi með lítilli 50% launahækkun til formanna stjórnarandstöðunnar sem viðbit. Þótt litið sé fram hjá launahækkun til formanna stjórnarandstöðuflokkanna, hafa Samtök atvinnulífsins virt eftirlaunaforréttindin ein til 50 milljóna kr. starfslokagreiðslu fyrir þingmenn og til 100 milljóna kr. starfslokagreiðslu fyrir ráðherra. Síðustu fréttir af málinu eru þær að...
Hjörtur Hjartarson
5. Júlí 2006
...Bændum hefur fækkað um 30 – 40% á undaförnum hálfum öðrum áratug. Hagræðing hefur verið mikil og ör í íslenskum landbúnaði. Hún má ekki verða of ör því þá göngum við of nærri íslenskum framleiðendum. Þá er hætt við því að hagræðingin snúist upp í andhverfu sína. Um þetta fjöllum við m.a. í yfirlýsingu sem við Elín Björg Jónsdóttir, fulltrúi BSRB í landbúnaðarnefnd forsætisráðherra, birtum í dag á...
4. Júlí 2006
...Sem virkum spilafíkli fer það mest í taugarnar á mér þegar forsvarsmenn halda þeim þvættingi fram að stærstur hluti teknanna komi frá fólki sem setji 500-þúsundkall í kassana og láti það got heita. Sem einstaklingur sem spilað hefur í þessum kössum í langan tíma, mér og mínum nánustu til mikils skaða, get ég sagt með fullri vissu að a.m.k. 90 prósent þeirra peninga sem í spilakassa fara eru frá sjúku fólki sem lagt hefur fjárhag, og það sem verra er, geðheilsu sína og sinna nánustu í rúst. Ég geri mér grein fyrir því að ...
Ágúst
4. Júlí 2006

...Fulltrúa þessa kerfis er nú – einmitt nú þegar heimurinn er að vakna til vitundar um hættuna, sem stafar af ráðandi öflum í Bandaríkjunum - boðið sem sérstökum heiðursgesti að Bessastöðum. Hvers vegna í ósköpunum? Ef bjóða á kunnum Bandaríkjamanni til Íslands og að Bessastöðum, væri hægt að finna ótölulegan fjölda vísinda- og listamanna, baráttumanna fyrir mannréttindum og lýðræðislegum gildum í stað þess að velja fulltrúa h
ernaðar- og heimsvaldastefnu.
Það á að vanda gestavalið á Bessastöðum. Eðlilegast er að þangað komi gestir sem eru í forsvari fyrir þjóðir, stofnanir og samtök. Þegar sleppir formlegheitunum taka við hin persónulegu tengsl. Ef forseta Íslands langar til að fara í brúðkaup barna norræns þjóðhöfðingja þá fer hann það á eigin vegum, prívat og persónulega. Ef hann langar til að taka á móti föður Bandaríkjaforseta, þá gildir hið sama. Um leið og slíkt er gert í ...
4. Júlí 2006
Birtist í Morgunblaðinu 03.07.06.
...Minna má á að þeir sem rétt áttu á svokölluðum viðbótarlánum og voru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum fengu lánuð 90% kaupverðs, óháð brunabótamati. Nú hafa þessi lán verið lögð af og sá hópur, sem áður naut þeirra er tvímælalaust verst settur allra sem nú leita lausna á sínum húsnæðismálum eftir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þykir mér vel koma til greina að íhuga að nýju tekjutengd viðmiðunarmörk eins og tíðkuðust um skeið til þess að verja hag þeirra sem eru tekjulitlir.
3. Júlí 2006
Ég horfði á Kastljós Sjónvarpsins í kvöld þar sem fjallað var um lyfjaverð. Landlæknir sagði að mönnum hlyti að hafa verið ljóst hvað í vændum var þegar lyfjasalan var gefin “frjáls” í stjórnartíð Kratanna á fyrri hluta tíunda áratugarins. Ég man ekki betur en á þetta væri bent og þá einkum af hálfu BSRB. Menn vildu hins vegar ekki hlusta á varnaðarorðin. Nú horfa menn upp á afleiðingarnar – einokun þar sem neytendur og skattgreiðendur eru hafðir að féþúfu – og stjórnmálamenn að fíflum (það er að segja sumir þeirra).Væri ekki ástæða til að ...
Grímur
2. Júlí 2006
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, blés mikinn í hádegisfréttum í dag. Athygli vekja þau orð sem ráðherrann notaði um það athæfi starfsmanna Vegagerðarinnar að flagga í hálfa stöng vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að skera niður samgönguáætlun á Vestfjörðum. Þetta hefði verið "hneykslunarvert", þarna hefðu verið að verki "undirmenn" vegamálastjóra sem hefði yfir þeim "húsbóndavald"; hann hlyti að kalla þá fyrir enda kvaðst ráðherrann mjög "hneykslaður".
Sturla Böðvarsson er hins vegar ekki hneykslaður á eigin athæfi. Sturlu Böðvarssyni væri hollt að ...
2. Júlí 2006
Þakka þér fyrir umfjöllun þína um starfslokasamninginn hjá forstjóra Straums Burðaráss uppá milljarð. Reyndar er ástæða til að þakka Blaðinu fyrir að segja okkur fréttir af þessu máli. Það segir sína sögu að það myndi taka láglaunamann 555 ár - eða frá fæðingu Kristófers Kólumbusar árið 1451 - að vinna fyrir þessum starfslokasamningi! Ef þessi samlíking þín opnar ekki augu manna fyrir misréttinu þá er samfélagið orðið blint. Síðan er hitt að nú talar ríkisstjórnin um aðhaldsaðgerðir. Hver skyldi eiga að sýna aðhald? Skyldu það vera milljarðamæringarnir sem hafa farið ránshendi um samfélagið? Nei, ríkisstjórninni kemur ekki til hugar að anda á þá vini sína. Þeir sem eiga að sýna aðhald eru...
Sunna Sara
30. Júní 2006

...Blaðið segir að þessi samningur hafi verið gerður á milli forstjórans og þáverandi stjórnarformanns. Í fréttinni er svo haft eftir honum að hann myndi
“ekkert eftir því hvernig samningar voru gerðir á sínum tíma.” Milljarður til eða frá, hver man eftir slíku smáræði? Það er tímanna tákn að starfslokasamningur af þessu tagi skuli varla vekja athygli sem nokkru nemur enda þjóðin orðin vön að fylgjast með slættinum í milljarðamæringunum. Hér er þó um að ræða upphæð sem tæki láglaunamann með 150 þúsund á mánuði “einungis” fimm hundruð fimmtíu og fimm ár að vinna fyrir. Hann hefði með öðrum orðum verið sleitulaust að frá árinu 1451, því herrans ári sem landkönnuðurinn mikli Kólumbus fæddist, en óþarfi er að kynna þann fræga Ameríkufara til sögunnar. Fyrir nokkrum árum var mikil gagnrýni uppi í þjóðfélaginu vegna ...
29. Júní 2006
Birtist í Morgunblaðinu 28.06.06.
...Að undanförnu hafa landsmenn fengið að heyra alls kyns uppástungur um veg hér og veg þar, sem einkaaðilar vilja leggja. Síðan er ætlunin að rukka okkur fyrir afnotin. Samgönguráðherra er ábyrgur fyrir samgöngukerfi landsins. Það á að vera okkur öllum til afnota. Ráðherrann verður að færa haldbær rök fyrir máli sínu áður en hann veitir fyrirtækjum frekari aðgang að pyngjum okkar en þegar hefur verið gert.
Samgönguráðherra leggur til dýrara fyrirkomulag en við búum nú við og jafnframt aukna skattheimtu. Þetta gengur ekki án nánari skýringa og umræðu...
28. Júní 2006
Hagfræði eru merkileg fræði, mestan part fyrir það að svokallaðir hagfræðingar á hægri kantinum (og þeir ráða umræðunni nú um stundir) tyggja allir sömu tugguna á hverju sem gengur. Þannig stendur uppúr hverjum manni að nú verði ríkið að taka á honum stóra sínum til að kveða niður verðbólguna. Það skal gert með því að hætta við eða fresta ýmsum „þensluvaldandi framkvæmdum” - hvað sem það nú þýðir.
Ríkisstjórnin hefur í samræmi við þetta boðað aðgerðir til að kveða niður verðbólguna. Meðal þeirra er að lækka lánshlutfall Íbúðalánasjóðs úr 90% í 80% og lækka hámarkslánið um milljón. Þetta er í samræmi við kenninguna um að „herða skrúfurnar” (meira um það á
http://blog.central.is/hage) Hugmyndin er að draga með þessum hætti úr byggingaframkvæmdum í landinu, en þær ku vera einkar þenslu- og verðbólguhvetjandi að mati tuggu(hag)fræðinga. Forsætisráðherrann birtist jafnframt í sjónvarpinu og tilkynnir þjóðinn að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fresta eða fara ekki í framkvæmdir sem hún hafði ekki ákveðið að fara í á næstunni og verður varla lengra komist í tuggufræðunum –
til að lækka verðbólguna fresta menn framkvæmdum sem þeir hafa hvort eð er aldrei ákveðið að fara í...28. Júní 2006

Ef BSRB fær því mögulega komið við verður það aldrei aftur látið viðgangast að bandalagið eigi ekki aðild að endurskoðun kjarasamninga. Við endurkoðun samninga er tekið á málum sem varða útgjöld hins opinbera og ráðstafanir sem snerta allt launafólk í landinu. Fráleitt er að BSRB sé haldið utan umræðu um slík málefni. Hvað varðar endurskoðun á launaákvæðum samninga hefur það sýnt sig að hún ber þess mjög merki að bandalagið eða aðildarfélög þess koma ekki þar að málum.
Í dag var haldinn fundur með samninganefnd fjármálaráðuneytisins og forsvarsmönnum BSRB, BHM og KÍ. Þar kom fram að ríkisstjórnin túlkar endurskoðunarákvæði samninga gagnvart opinberum starfsmönnum mjög þröngt og eru ákvæðin nánast klæðskerasaumuð til þess að sniðganga þá. Þessu geri...
28. Júní 2006
Ég hlustaði á alþingismennina Jón Bjarnason, VG, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Samfylkingu, tjá sig um efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar í þættinum Ísland í dag. Málflutningur Jóns Bjarnasonar var mér að skapi og vissulega sumt í málflutningi Ingibjargar Sólrúnar. Þó ekki daður hennar og Samfylkingarinnar við stóriðjustefnuna. Ég heyrði ekki betur en hún mælti því bót að reisa enn eitt álverið og mælti hún í þættinum með Húsavík! Er ekki nóg komið af þessu rugli? Það er hárrétt sem fram kom hjá Jóni Bjarnasyni að ríkisstjórnin á að...
Haffi
27. Júní 2006

Álfheiður Ingadóttir og Helgi Hjörvar, sem sæti eiga í stjórn Landsvirkjunar kröfðust þess á stjórnarfundi í gær að aflétt yrði leynd yfir verði á raforku til stóriðjufyrirtækja.
Forstjóri Landsvirkjunar mætti í kjölfarið í alla fjölmiðla og sagði að slíkt væri af og frá því þá gætu væntanlegir stóriðjukúnnar borið sig saman við fyrri kúnna og það væri Landsvirkjun ekki hagstætt. Les: Svo slæma samninga hefur Landsvirkjun gert að ekki er rétt að upplýsa væntanlega viðskiptavini í stóriðjubransanum um kjörin! ...Helgi Hjörvar var eini Samfylkingarfulltrúinn í stjórn Landsvirkjunar sem greiddi atkvæði gegn samningunum við Alcoa á sínum tíma, hinir studdu hann. Á þeim tíma átti VG ekki fulltrúa í stjórn Landsvirkjunar. Það var ekki fyrr en vorið 2003 að Álfheiður Ingadóttir var kjörin stjórnarmaður í Landsvirkjun og hún stóð að fyrrnefndri tillögu í gær. Hvernig skyldi standa á því að í fjölmiðlum skuli hún ekki innt álits á málinu, aðeins Helgi Hjörvar? Hafi Morgunblaðið og Fréttablaðið ekki fundið myndir af Álfheiði Ingadóttur í safni sínu, þá bæti ég úr því með því að birta hér mynd af fulltrúa VG í stjórn Landsvirkjunar og er fjölmiðlum frjálst að nýta hana í frekari fréttaflutningi af þessu máli..
26. Júní 2006

Hinn 4. júlí nálgast óðum og líður því senn að því að ríkasta stórveldi heimsins, Bandaríki Norður-Ameríku, haldi upp á þjóðhátíðardag sinn. Hinn 4. júlí árið 1776 var lýst yfir sjálfstæði Bandaríkjanna, sem heyrt höfðu undir bresku krúnuna.
“Þar með hófst ameríski draumurinn”, segir George Bush Bandaríkjaforseti á sér
stakri heimasiðu sem opnuð hefur verið vegna hátíðahaldanna:
“Við bjóðum öllum þjóðum heims að halda upp á daginn með okkur á netinu”, segir forsetinn þar í ávarpi. Ekki nóg með þetta, sendiráð Bandaríkjanna um heim allan efna til hátíðahalda í tilefni dagsins. Ég gef mér að svo sé, því varla er einvörðungu stofnað til fagnaðar í sendiráðinu í Reykjavík en frá því streyma nú út boðskortin.
Allt þetta umstang hlýtur að kosta sitt. Bjór og pitsur er að vísu ekki mjög kostnaðarsamur kostur á mælikvarða Íraksstríðsins eða stjörnustríðsáætlunarinnar en allt telur þetta. Þess vegna ber að fagna því að...
24. Júní 2006
Ég trúi ekki að þið klárið þessa kjarasamninga, án þess að eftirlaunasamningar þingmanna verði endurskoðaðir, þeir eru ekkert nema rán, ef ekki má hrófla við þeim þá er það annað en aðrir verða að þola. Ég er nú ekki ánægð með mín eftirlaun og er þar að auki spyrt við eftirlaun mannsins míns, eins og það er nú líka niðurlægandi. En um daginn var ég á ferð með konum, öllum á eftirlaunaaldri og ein þeirra tjáði mér aðspurð að hún hefði unnið 32-33 ár á öldrunarstofnun í nágrenni Reykjavíkur og væri afraksturinn á milli...
Edda
23. Júní 2006
...Hjá Viðskiptaráði segja þeir sjálfir að Alþingi hafi í níu tilvikum af hverjum tíu farið eftir kröfum ráðsins. Þeir segjast ekki hafa Alþingi í vasanum og þeir halda því ekki fram að þeir hafi komið í veg fyrir að Framsóknarflokkurinn fengi fjármálaráðuneytið og þeir sjá ekkert athugavert við að einmitt hagsmunasamtök auðvaldsins skuli hafa slík hreðjatök á löggjafarsamkundunni. Vissir þú þetta Ögmundur? ...Hverjir það eru í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sem sinna sérhagsmunum Viðskiptaráðs af svo miklu kappi. Svo eruð þið vinstri sinnarnir að þvæla um það fram og aftur, eyðandi í það ómældum tíma og fyrirhöfn að diskútera reglur um fjármögnun stjórnmálaflokka. Þið gangið ekki á öllum, eins og sagt er. Pétur og Páll, sem formlega hafa atkvæðisrétt, vita það báðir að...
Ólína
23. Júní 2006

...Já, auðvitað grípur Geir H. Haarde, forsætisráðherra um ennið á mynd Vilhelms, sem birtist í Fréttablaðinu þegar Halldór Ásgrímsson tók pokann sinn. Það er aðeins tæpt ár til kosninga og því senn komið að skuldadögum ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem seint verður sögð hafa skilað góðu búi. Hagvöxtur hefur ekki verið notaður til að styrkja innviði samfélagsins, þvert á móti þá hafa þeir verið veiktir, fátækt hefur aukist og skuldastaða þjóðarbúsins er verri en nokkru sinni í sögunni... Á heimasíðu forsætisráðuneytisins er talað um að nú skuli verðbólgunni náð niður og að "aðilar" hafi sett sér markmið í því efni. Þetta er að sjálfsögðu jákvætt og mikilvægt er að vel takist til um þetta. Þeirri spurningu er hins vegar ósvarað hvers vegna ríkisstjórnin lagði slíkt ofurkapp á það við frágang síðustu samninga að komið yrði í veg fyrir að opinberir starfsmenn kæmu hvergi nærri endurskoðun kjarasamninga þegar þar að kæmi. Með þetta í huga voru endurskoðunarákvæði samninga hönnuð. Þá kom fram að...
22. Júní 2006

Ekki fer það framhjá nokkrum manni að stjórnarsamstarf Íhalds og og Framsóknar hefur nú tekið sér bólfestu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Linnulaus fréttaflutningur í gær af áformum um mislæg gatnamót hér og þriggja hæða gatnamót þar minnti okkur á að stjórnarskipti hafa átt sér stað í Reykjavík. Nú stjórnar Sjálfstæðisflokkurinn borginni en Framsókn styður allt það sem hann vill eftir að hafa þegið sínar sporslur og bitlinga: Sama mynstur og í Stjórnarráðinu. Eflaust mun það gerast í samstarfi þessara flokka í borginni, eins og í ríkisstjórn, að Framsókn gerist enn harðdrægari í að framkvæma stefnumál Sjálfstæðisflokksins en sá flokkur myndi nokkurn tímann voga sér. Þannig má ætla að mislæg gatnamót á hverju horni verði innan tíðar helsta hugsjón Framsóknarflokksins og munu þá verða gleymd loforðin um ...
22. Júní 2006

...Andúð í garð fasisma er sem betur fer mikil í Evrópu og eru mótmælin við komu Bush vitnisburður um hana. Bandaríkin hafa verið framvörður fjármagnsins um heillar aldar skeið og iðulega farið fram af mikilli hörku og grimmd til að verja h
ernaðarhagsmuni sína og hagsmuni bandarískra auðhringa. Mikil breyting hefur þó orðið á framgöngu Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi frá því á öndverðri og miðri 20. öld og þar til nú. Svo mikil er þessi breyting að hún hlýtur að flokkast undir eðlisbreytingu. Ekki hefði ég fyrr leyft mér að kalla bandarískan forseta fasista. Sú eðlisbreyting sem átt hefur sér stað þótti mér koma vel fram í frásögn bandaríska rannsóknarfréttamannsins Greg Palsat nýlega þar sem hann lýsir því hvernig faðir hans, stoltur medalíuhafi í Bandaríkjaher frá síðari heimsstyrjöldinni, hafi fyllst efasemdum og síðar andúð þegar...
22. Júní 2006
Allir vita að Geir H. Haarde er formaður Sjálfstæðisflokksins. Enginn veit hins vegar hver er formaður Framsóknarflokksins. Sennilega er Halldór Ásgrímsson það enn að forminu til. En hann er farinn. Það er deginum ljósara. Svo mjög er hann farinn að okkur er sagt að Þorgerður Katrín, menntamálaráðherra verði staðgengill Geirs H. Haarde sem forsætisráðherra ef til kemur. Íhaldið er þannigt búið að taka Framsókn í fóstur eins og gert var í uppgræðsluátakinu um árið og hét, ef ég man rétt: Flag í fóstur. Draumur Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að sameina Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk er þannig orðinn að veruleika í reynd. Framsóknarflagið er orðið...
Haffi
21. Júní 2006

...Þetta er rétt hjá Drífu Snædal. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur stimplað náttúruverndaráherslur inn í íslensk stjórnmál frá því flokkurinn varð til undir aldamótin og áhersla á jafnrétti kynjanna hefur einnig verið ein af grunnstoðum hreyfingarinnar. Sú hugsun er ekki ný af nálinni. Hún fléttast saman við hefðbundna félagshyggju, sem byggir á jöfnuði og andstöðu við hvers kyns misrétti. Það er hins vegar rétt hjá Drífu Snædal að jafnréttisbaráttufáninn hefur nú verið hafinn á loft af miklum krafti og standa þar fremst í flokki hópur ungra kvenna, sem sett hafa mark á umræður og áherslur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Baráttugleði og kraftur þeirra hefur smitað út í þjóðfélagið, sem finnur að hugur fylgir máli. Þetta hefur án efa...
20. Júní 2006

...Norrænan samvinnuvettvang, hvort sem er Norðurlandaráð eða annar, þarf verkalýðshreyfingin að nýta til hins ýtrasta til að koma á framfæri sjónarmiðum sem eru til þess fallin að efla norræna samfélagsmódelið sem byggir á jafnvægi, jöfnuði, samvinnu og samstöðu en ekki valdboði og hrárri samkeppni. Það er ástæða til að minna á að norræna samstöðumódelið hefur gefið betri árangur hvað varðar efnalegar framfarir en samfélag sem reist er á misrétti. Fyrrgreindar áherslur komu fram í ályktun norrænnar verkalýðsráðstefnu á vegum NTR, norrænna opinberra starfsmanna, sem fulltrúar BSRB sátu í lok síðustu viku. Nánari ...
14. Júní 2006
...Sjálfstæðisflokkurinn hefur notað Framsókn til að framkvæma stefnu sína í tíu ár. Svo trú er Framsókn orðin þessari stefnu að hún telur hana vera sína. Þegar hún selur og gefur landið, þegar hún einkavinavæðir, þegar hún leggst undir Bush stjórnina bandarísku, fasíska og heimsvaldasinnaða einsog hún er, þá telur Framsókn þetta vera stefnu Framsóknarflokksins. Og auðvitað má það til sanns vegar færa. Þetta er sú stefna sem Framsóknarflokkurinn hefur fylgt í áratug. Framsóknarflokksstefnan er hægra megin við það sem Sjálfstæðisflokknum hefur þótt boðlegt að boða opinberlega og út á við. Það hlutverk hefur Framsókn hins vegar tekið að sér – í skiptum fyrir ráðherrastóla. Og nú þegar Framsókn fær einn slíkan stól í viðbót er ástæða til að hafa af því nokkrar áhyggjur að flokkurinn gerist jafnvel enn auðsveipari þjónn Sjálfstæðisflokksins en til þessa ef það þá á annað borð er hægt! Að sumu leyti var það táknrænt að ...
13. Júní 2006

Í dag var borinn til grafar Einar Ögmundsson, frændi minn og náinn vinur. Útför hans var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík og var prestur séra Þórir Stephensen en hann var þremenningur við Einar að frændsemi og var með þeim vinátta. Séra Þóri mæltist einstaklega vel og flutti hann einhverja sterkustu ræðu sem ég hef heyrt flutta við slíka athöfn. Var þetta almennt mál manna. Hinn pólitíski litur séra Þóris Stephensens er ekki rauður heldur blár eins og þeir vita sem til þekkja. En vini sínum – skoðunum hans og hugsjónum - var hann trúr. Þess vegna var ræðan undir áhrifum hinna rauðu baráttufána hins unga Einars Ögmundssonar...
12. Júní 2006

Einhverjar ánægjulegustu samkundur sem ég kem á eru hinar árlegu Menningarhátíðir BSRB í Munaðarnesi. Þar rekur BSRB öflugustu orlofsbyggð verkalýðshreyfingarinnar í landinu, hátt í hundrað sumarhús ásamt þjónustumiðstöð. Í Munaðarnesi er á hverju sumri – og hefur verið allar götur frá byrjun tíunda áratugar síðustu aldar – efnt til málverkasýningar en við opnun hennar er síðan haldin Menningarhátíð sem við BSRBarar skrifum með stórum staf því svo heitir þessi viðburður. Á Menningarhátíðinni er boðið upp á það besta á sviði ljóðlistar og í söng og músík. Listamaðurinn sem sýnir í Munaðarnesi að þessi sinni er
Gísli B. Björnsson og kallar hann sýningu sína,
Ljós og litur í landslagi. Verk hans...
12. Júní 2006
Hvers vegna vilja framsóknarmenn virkja? Hvaða hagsmuna eiga þessir menn að gæta?
Þórður B. Sigurðsson
12. Júní 2006
... Ég er 34 ára læknir búsettur og starfandi í Svíþjóð eins og er en stefni að sjálfsögðu á að flytja aftur til Íslands, ef eitthvað verður eftir af landinu. Ég hélt mig hafa þvegist af allri vinstrihneigð í Svíþjóð þar sem þar er ansi margt sem sannarlega mætti betur fara og vinstri stjórn verið lengi að. Rangt hjá mér. Eins og vonandi með marga aðra vaknaði heldur betur líf í "gömlum" glæðum og logar glatt nú eftir lestur Draumalandsins og ég spyr því...
Vallitralli
10. Júní 2006
Að vera framsóknarmaður þessa dagana er áreiðanlega ekkert grín. Að sögn leiðtoga flokksins hafa andstæðingarnir lagt Framsóknarflokkinn í einelti undanfarna mánuði, með þeim afleiðingum að færri kjósendur lögðu í að kjósa flokkinn í sveitarstjórnarkosningunum en framsóknarmönnum þykir hollt. Hvort flokkurinn sjálfur eigi þar einhverja sök er látið liggja milli hluta en kjósendur hafa þúsundum saman hagað sér líkt og krakkar gera stundum á skólalóð – haft flokkinn útundan.
Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart. Flokkurinn er allra flokka elstur, stofnaður 1916 þegar meira en helmingur þjóðarinnar hafði naumt skammtað lifibrauð sitt af landbúnaði, Framsóknarflokkurinn varð flokkur bænda og búaliðs. Nánast alla 20. öldina hafði flokkurinn þingfylgi og völd langt umfram kjörfylgi í krafti ranglátrar kjördæmaskipunar. Stærsta hluta sama tíma barðist flokkurinn gegn öllum...
10. Júní 2006
Dyggðum rúinn Dóri minn,
djúpt í flórinn sokkinn,
ekki tókst að tæla Finn
til að jarða flokkinn.
Kristján Hreinsson
8. Júní 2006
Nýafstaðnar kosningar voru merkilegar fyrir margar sakir. Framsóknarflokkurinn fékk falleinkunn hjá þjóðinni en hún situr uppi með stjórnmálaflokk sem hefur gefur lýðræðinu langt nef og tekur sér völd langt umfram vilja landsfólks. Vinstrihreyfingin – grænt framboð stimplaði sig inn sem þriðja stærsta stjórnmálaafl landsins og vinstrisveiflan er sjáanleg. Það er þó annað og meira en hin hefðbundna félagshyggja sem gerir fylgi við vinstri græn eins mikið og raun ber vitni. Flokkurinn hefur tekið upp á sína arma helstu verkefni framtíðarinnar, náttúruvernd og jafnrétti kynjanna.
7. Júní 2006
Var Þingvallabærinn byggður fyrir Framsóknarflokkinn? Hvað var formaður Framsóknarflokksins, stjórn sama flokks og formenn framsóknarfélaganna um allt land að gera í Ráðherrabústað forsætisráðherra Íslands á Þingvöllum?! Þetta er hneyksli og gera verður kröfu um að ríkissjóður að minnsta kosti rukki Framsóknarflokkin fyrir aðstöðuna. Hélt að nóg væri að félagsheimilum um allt...
Borgþór
6. Júní 2006

Þeir voru dramatískir félagarnir að baki Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, á hlaðinu fyrir framan ráðherrabústaðinn á Þingvöllum í gærkvöldi þegar Halldór sagði að hann myndi nú fara frá sem forsætisráðherra og innan skamms einnig sem formaður Framsóknarflokksins. Alltumlykjandi í sviðsmynd fréttamannafundarins voru (karl)menn sem greinilega áttu að sýna skjaldborg sem slegin hefði verið um Framsóknarflokkinn og fráfarandi foringja hans. Þungir á brún minntu þeir svolítið á Kreml hér forðum.
Halldór Ásgrímsson, fráfarandi forsætisráðherra, sagði á þessum fréttmannafundi að nú myndu hefjast nýjar stjórnarmyndunarviðræður og myndi hann...
6. Júní 2006
Í nýlegri skoðanakönnun kom Guðni Ágústsson út sem vinsælasti ráðherrann í ríkisstjórninni. Ekki gef ég mjög mikið fyrir slíkar kannanir. Þó verður að líta á þær sem vísbendingu um vinsældir. Hlýtur það ekki að bera vott um lánleysi Framsóknar að telja það helst til árangurs í boðuðu "endurreisnarstarfi" að koma Guðna Ágústssyni, vinsælasta ráðherranum út í hafsauga? Þetta sé meira að segja sérstakt forgangsverkefni...Og konurnar slást ekkert síður en karlarnir. Þannig sagði Jónína Bjartmarz að ef formaður og varaformaður ættu að axla ábyrgð af slæmri útkomu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum þá ætti...
Sunna Sara
5. Júní 2006

...
Ef nafn einhvers stjórnmálamanns tengist fyrrnefndu tveimur þáttunum, álvæðingunni og einkavæðingunni, meira eða jafnmikið og nöfn þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur, þá er það nafn Finns Ingólfssonar. Þess vegna er það með ólíkindum að láta sér koma til hugar að velja hann til endurreisnarstarfs í Framsóknarflokknum. Á myndinni hér að ofan má sjá þá félaga Ólaf Ólafsson... koma úr Ráðherrabústaðnum sæla og hróðuga eftir að gengið hafði verið frá því að S-hópurinn eins og Framsóknarhópurinn var kallaður, hafði fengið Búnaðarbankann í sinn hlut...Sú spurning gerist mjög áleitin hvers konar fyrirbæri Framsóknarflokkurinn eiginlega er orðinn. Er hann stjórnmálaflokkur eða er hann ef til vill orðinn þröngt hagsmunabandalag sem nýtir sér ítök í stjórnmálum, fjármálaklíkum innan flokksins til framdráttar? Til þess að skilja hræringarnar innan flokksins er nauðsynlegt að kunna svörin við þessum grundvallarspurningum. Er flokkurinn ..
4. Júní 2006
Það gladdi mitt litla hjarta þegar slökkt var á Kanaútvarpinu, ekki síst vegna þess að ég hafði sjálfur rofið þessa sömu stöð fyrir rúmum 30 árum og kallaður fyrir saksóknara fyrir vikið. Ekki þótti ástæða að sakfella okkur sem að aðgerðum þessum stóðu, enda höfðu valdhafar illan málstað að verja... Það er táknrænt að á sama tíma og kanar loka útvarpi sínu birtast fréttir af hlerunum...Mín tilfinning er sú að hleranir hafi haft minna að gera með útfærslu landhelginar en þeim mun meira að gera með harða baráttu Dagsbrúnarmanna með Hannes Stephensen (sem reyndar hætti þetta ár), Eðvarð, Gvend Jaka og fleiri eldhuga í forystu. Spurning sem sækir á hugann er hvort dómsúrskurðir um heimildir til hlerana segi allan sannleikann um þær hleranir sem raunverulega voru stundaðar á þessum tíma. Verkföll í upphafi Viðreisnar og endurteknar kosningar íhaldsins í Dagsbrún voru vissulega tilefni til hlerunar fyrir valdakjarna sem margoft sýndi að hann sveifst einskis...
4. Júní 2006
Fjölmiðlar greina frá því þessa dagana að Finnur Ingólfsson sé á leiðinni aftur í stjórnmálin. Fór hann einhvern tíma úr þeim? Það vantar hugmyndaflug og vit í þá sem um fjalla. Svaraði Finnur ekki kalli þegar ríkisstjórnin í einkavinavæðingunni auglýsti: Háseta vantar á bát? Var það ekki Finnur sem tók með sér Ólaf Ólafsson og Bakkavararbræður inn í Búnaðarbankann og Símann? Var það ekki Finnur sem ...
Stefán
4. Júní 2006
...Kannski er ekki við RÚV að sakast - kannski koma fréttirnar svona frá Framsókn. Og afhverju ætti svo Finnur að verða formaður Framsóknar? Jú svarið er einfalt. Hann er einn af þeim mönnum sem gekk út einn dag sem launamaður og gekk inn þann hinn næsta sem milljarðamæringur. Af hverju? Spyrjiði vindinn. Eða svokallaðann S-hóp, menn ná alltaf betri árangri í hópum.
Guðmundur Brynjólfsson
4. Júní 2006
Í kvöldfréttatíma RÚV í dag var prýðilega unnin og upplýsandi frétt um ný lög um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur. Þessi starfsemi, sem í eðli sínu er einokunarstarfsemi, verður markaðsvædd, þ.e. gerð að hlutafélagi. Þessi lög voru samþykkt á Alþingi í gær gegn mótmælum starfsmanna, bæði þeirra sem eru í Félagi flugumferðarstjóra og Félagi flugmálastarfsmanna. Þessi félög höfðu reitt fram ýmis gögn máli sínu til stuðnings. Ég hef grun um að fáir hafi kynnt sér þau. Ekki ætla ég að lasta fréttaflutning RÚV í kvöld. Hann var þvert á móti prýðilegur sem áður segir. En hvers vegna fengum við ekki slíka umfjöllun fyrr, áður en lögin eru samþykkt og allt um seinan? Í fréttatímanum var rætt við Loft Jóhannsson, formann Félags flugumferðarstjóra. Hann var greinargóður að vanda. Hann...
3. Júní 2006
...Þá hefði Halldór gert Geir H. Haarde grein fyrir því endanlega að hann vildi hætta, að Geir H. yrði að fara í forsætisráðherrann, Finnur í fjármálin sem utanþingsmaður og að Guðni Ágústsson myndi hætta sem varaformaður til að koma Finni að í það embætti. Í þessu sambandi sagði þessi fyrrum grannkona mín að Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir í borginni og Sjálfstæðirflokkur og Framsókn við landsstjórnvölinn væru barasta element sem ekki gengju upp. Villi athugaði svo baklandið, eins og hann kallaði það, sem voru skilaboð frá Geir um að gleyma Frjálslyndum og kippa framsóknardrengnum upp í til sín. Þannig skýrðum við þetta, gamlar vinkonur á Spáni, báðar með barnabörnin með okkur, og kallarnir heima. Þetta kostaði að vísu nokkur...
Ólína
3. Júní 2006

Nýlega var fjallað um landhelgisdeiluna í blaðakálfi Morgunblaðsins. Umfjöllunin hefur vakið hörð viðbrögð, sem meðal annars hafa teygt sig inn á þessa síðu. Hin gagnrýnu viðbrögð ganga út á, að hlutur þess manns sem fremstur stóð í þessari baráttu var fyrir borð borinn í umfjölluninni. Sá maður er Lúðvík Jósepsson, en hann gegndi stöðu sjávarútvegsráðherra á ögurstundu í deilunni og gekk harðast fram og af mestri staðfestu í að fá hana til lykta leidda.
Hér á síðunni ...Þessar greinar skrifa menn sem vita hvað þeir syngja og hvet ég lesendur til þess að ...
2. Júní 2006
Morgunblaðskálfurinn um sigur í landhelgismálinu jaðrar við að vera sögufölsun. Útfærsla auðlindalögsögunnar í 200 sjómílur var í takt við það sem búið að ná saman um í raun á hafréttarráðstefnunni í Caracas 1974...Sjálfstæðisflokkurinn þurfti hins vegar að laga ásýnd sína í landhelgismálinu og færði út í 200 mílur - áður en búið var að segja gjörið svo vel. Lúðvík Jósepsson gnæfir yfir aðra stjórnmálamenn þegar kemur að landhelgisdeilunum. Morgunblaðið fær því ekki breytt.
Hjörtur Hjartarson
2. Júní 2006

Í Morgunblaðinu í gær birtist opið bréf til alþingismanna um málefni Ríkisútvarpsins þar sem varað er við því að stofnuninni verði breytt í hlutafélag. Þessi blaðagrein er merkileg fyrir ýmissa hluta sakir, gott ef hún er ekki söguleg, því höfundar eiga það sammerkt að vera allir fyrrverandi menntamálaráherrar landsins úr þremur stjórnmálaflokkum. Ekki minnist ég þess að þrír fyrrverandi ráðherrar úr þremur flokkum sameinist í blaðaskrifum um frumvarp sem er til umfjöllunar á Alþingi. Ingvar Gíslason var sem kunnugt er, menntamálaráðherra Framsóknarflokksins, Ragnar Arnalds var menntamálaráherra úr Alþýðubandalagi og Sverrir Hermannsson var menntamálaráherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn en siðar varð hann formaður Frjálslyndaflokksins. Í Morgunblaðsgreininni segir m.a. :
" …Við undirritaðir ítrekum það, sem fyrr hefur komið fram, að við teljum að best fari á því að Ríkisútvarpið haldi stöðu sinni sem sjálfstæð þjóðareign og mælum gegn því að breyta rekstrarformi þess í hlutafélag. Sérstaklega leyfum við okkur að beina því til alþingismanna að þeir greini muninn sem er á þjóðmenningarstofnun og viðskiptafyrirtæki."
2. Júní 2006
Ótrúlegar en hefðbundnar sögufalsanir sjást oft í íslenskri stjórnmálaumræðu. Það nýjasta er landhelgismálið. Þar var reynt að breiða yfir og fela eftirfarandi staðreyndir...
Og það er heldur ekki stórmannlegt að reyna að falsa söguna; það er öllum fyrir bestu að skoða allt í krók og kima hvort sem það eru hleranir eða landhelgismál. Lúðvík Jósepsson var einn öflugasti stjórnmálamaður Íslands fyrr og síðar. Það er ástæðulaust að láta andstæðinga vinstri manna komast upp með að breiða yfir þá staðreynd.
SB
2. Júní 2006
Ekki var gert mikið út þætti Lúðvíks Jósepssonar í landhelgismálinu í nýlegu aukablaði Morgunblaðsins um það mál. Þetta má furðu sæta en fyrir þá sem til þekkja þá á þessi "gleymska" sér fordæmi þegar Lúðvík og Morgunblaðið eru annars vegar. Þessi "gleymska" á sér nefnilega sögulegar rætur - m.a. fylgispekt við vestræn hernaðaröfl....Um þetta mál sagði Lúðvík: „Um það er ekki að villast að það sem stóð í vegi fyrir eðlilegum vinnubrögðum íslenskra manna og íslenskra stjórnmálaflokka var bandalagið við þjóðir Vestur-Evrópu og Bandaríkin. Sífellt var látið í það skína að Íslendingar væru að „rjúfa samstöðu vestrænna þjóða" veikja Atlantshafsbandalagið ef þeir aðhefðust það í landhelgismálinu sem Bretar gætu ekki unað við."
1. Júní 2006

Fram hefur komið í fréttum að Þjóðarhreyfingin hyggst leggja fram kæru á hendur Framsóknarflokknum í Reykjavík fyrir meint kosningasvindl. Því er haldið fram að flokkurinn hafi keypt atkvæði innflytjenda, nokkuð sem ég get staðfest að þrálátur orðrómur var um fyrir kosningarnar. Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins vísaði þessum ásökunum á bug í samtali við Ólaf Hannibalsson í Kastljósi í kvöld. Ólafur svaraði því til að best væri fyrir alla aðila að fá málið á hreint og til þess væri kæran fram komin...Eitt enn væri fróðlegt að fá rannsakað. Óskar Bergsson sagði í fyrrnefndum Kastljósþætti að fyrir kosningar hefði Framsóknarflokkurinn verið sakaður um að ætla sér að kaupa sig til sigurs í kosningunum. En hvað gerist svo?
"Nú liggur fyrir að við auglýstum minnst" ! Skyldi þetta vera rétt hjá þessum talsmanni Framsóknarflokksins? Eina könnunin sem ég hef séð um auglýsingakostnað flokkanna var birt á vefritinu Múrnum og þar kom fram að Framsóknarflokkurinn hefði auglýst mest ! Sjá ...
1. Júní 2006
Í vikunni fylgdi "kálfur" Morgunblaðinu sem fjallaði um baráttu þjóðarinnar í landhelgismálunum. Það vakti athygli mína að með ótrúlegum hætti var í þessu blaði skautað framhjá þátttöku manna eins og Lúðvíks Jósepssonar í þessu máli. Þessi þögn um hans hlut er þeim mun athyglisverðari nú þegar hlerunarmálin eru í deiglunni. Þar boða stjórnarflokkarnir "hlutlausa rannsókn fagaðila". Skyldi svipað hlutleysi verða uppá teningnum í þeirri ...
Guðmundur Brynjólfsson
31. Maí 2006

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skrifar grein hér á síðuna þar sem hún leggur mat á kosningaúrslitin í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Hún telur að fylgisaukning VG muni hafa varanleg áhrif í íslenskum stjórnmálum en jafnframt megi ætla að þetta sé fyrirboði um breytt hugarfar þjóðarinnar:
"Það er mín trú að þessi fjögurra prósentustiga fylgisaukning VG muni hafa varanleg áhrif í íslenskum stjórnmálum, ekki síst ef á eftir fylgir fylgisaukning í alþingiskosningum að ári. Vinstrihreyfingin – grænt framboð er til alls líkleg að ári og vegna skýrrar málefnastöðu flokksins er hægt að líta á þá fylgisaukningu sem nú hefur orðið sem vísbendingu um breytt hugarfar þjóðarinnar." Katrín minnir á að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi fengið 14 sveitarstjórnarmenn kosna af hreinum VG-listum en seinast hafi þeir aðeins verið fjórir. Einnig hafi VG verið ...
30. Maí 2006
Vinstrihreyfingin – grænt framboð getur verið stolt af árangri sínum í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Skýrar áherslur flokksins í umhverfismálum, félagsmálum og skólamálum vöktu athygli en yfirskrift baráttunnar var „Hreinar línur“ — sem kjósendur virtust kunna að meta. Ljóst er að umhverfismál komust á dagskrá í kosningunum ekki síst fyrir tilstilli VG og gott fylgi flokksins víða um land bendir til þess að margir hafi kosið um umhverfismálin. Á sama tíma hrapaði fylgi Framsóknarflokksins og er vart hægt að túlka úrslitin öðruvísi en svo að kjósendur séu að refsa flokknum fyrir frammistöðu hans í ríkisstjórn og þá einkum stóriðjustefnuna. Sjálfstæðisflokkurinn sigldi hins vegar nokkuð lygnt í gegnum kosningarnar — hann dansar í sólinni eins og varaformaður Framsóknarflokksins hefur orðað það...
29. Maí 2006

Þá hefur það gerst að ríkisstjórnin er komin í Ráðhús Reykjavíkur. Þangað er mættur Vilbjörn en svo hefur verið kallað þetta samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borginni, með þá Vilhjálm Þ. og Björn Inga í fararbroddi. Þetta eru ill tíðindi fyrir þá sem vilja efla samfélagsþjónustu og umhverfisvernd. Fyrir áhugamenn um mislæg gatnamót, einkavæðingu, stóriðjustefnu, í stuttu máli fyrir þá sem styðja þá mengunar- og misréttisstefnu, sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa rekið í Stjórnarráðinu, er þetta hins vegar drauma stjórnarmynstrið. Og fyrir álrisana, sem þessir flokkar þjóna svo vel, er Vilbjörn himnasending. Í fréttaviðtölum eftir að tilkynnt var um myndun meirihlutans var...
29. Maí 2006
Nýr borgarstjórnarmeirihluti í Reykjavík á sumt sammerkt með Bush hinum bandaríska. Þá er ég ekki að tala um stuðninginn við innrásina í Írak sem Bush, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur studdu. Ég er að hugsa til þess að báðir ...
Haffi
28. Maí 2006

Á netinu gengur nú undirskriftasöfnun til að mótmæla þögn fréttastofu Sjónvarpsins um göngu Íslandsvina laugardaginn 27. maí 2006. Í áskoruninni segir eftirfarandi, nokkuð sem ég skil og styð heilshugar:
"Við undirrituð sjáum okkur knúin til að gera athugasemd við þögn fréttastofu Sjónvarpsins um göngu Íslandsvina laugardaginn 27. maí 2006. Þúsundir Íslendinga og Íslandsvina sáu ástæðu til að fjölmenna í göngu niður Laugarveg og koma saman á Austurvelli til að mótmæla stóriðjuframkvæmdum stjórnvalda. Þennan atburð lét fréttastofa Sjónvarpsins hjá sér fara og sá ekki ástæðu til að segja þjóðinni frá þessum viðburði. Hvorki aðdraganda göngunnar né ...27. Maí 2006

Þessi mislægu gatnamót eiga ekki heima í Hlíðunum segir í dreifiriti Samfylkingarinnar sem dreift var í Hlíðunum í gær, daginn fyrir kjördag. Í dreifiritinu er þeim ósannindum haldið fram að Samfylkingin sé ein um andstöðu við mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar "samkvæmt úttekt Ríkissjónvarpsins" . Hvar skyldi hana vera að finna? Hún hefur farið framhjá mér. Það hefur hins vegar ekki farið framhjá mér hvernig ....Sú aðferðafræði Samfylkingarinnar að dreifa ósannindaáróðri í þann mund sem kjörstaðir opna og þannig að illmögulegt er að koma við leiðréttingum, er með endemum. Samfylkingunni ber að senda frá sér yfirlýsingu þegar í stað og leiðrétta ósannindin. Samfylkingin geri það svo upp við samvisku sína hvort ...
27. Maí 2006
Hafið þið Vinstri Græn ekki áhyggjur af aukinni umferð bíla og strætóa t.d. þegar að nýtt hverfi rís þar sem Reykjavíkurflugvöllur er núna...?
Jón Þórarinsson
27. Maí 2006
Birtist í Fréttablaðinu 26.05.06.
Greinin er skrifuð í félagi við Þorleif Gunnlaugssn, 3. mann á lista VG í Reykjavík.
Einu mega kjósendur treysta og það er að Vinstrihreyfinigin grænt framboð mun gera allt sem hún megnar til þess að færa húsnæðismál tekjulágs fólks til betri vegar. Þar þarf margt að koma til. Aukið framboð á leiguíbúðum, öflugra húsaleigubótakerfi og síðast en ekki síst stóraukinn stuðningur félagsþjónustunnar til aðstoðar fólki sem ekki getur séð sér farborða. Nú þegar dýrtíðarskrúfan er farin að snúast eykst þörf á því að fylgja félagslega ábyrgri stefnu hvað þetta...
27. Maí 2006
Ég legg til að sýni úr íhaldsmanni verði send í erfðagreiningu! ...Frjálshyggjustefna og auðvaldshyggja ásamt gengdarlausri fyrirgreiðslupólitík og sóðaskap, á kostnað þeirra verst settu í þjóðfélaginu. Skrítin pólitík og aumkunnarverð. Ég ætla rétt að vona að finnist mótefni við þessari lífseigu íhaldsveiru, allavega fyrir næstu alþingiskosningar. Sendum samt samúðarkveðjur til allra sjálfstæðismanna í von um skjótann bata :)
Valgeir
26. Maí 2006

...Hvort skyldu menn vilja virkja starfskrafta Þorleifs Gunnlaugssonar í borgarstjórn Reykjavíkur eða greiða götu fulltrúa Framsóknarflokksins sem lofar gulli og grænum skógum, peningagjöfum til kjósenda í skiptum fyrir atkvæði? Þar er ég ekki síst að vísa til þess að flokkurinn hefur látið þau boð út ganga að hver Reykvíkingur komi til með að fá 250 þúsund króna ávísun eftir að Framsókn hafi látið selja hlut borgarinnar í Landsvirkjun! Svo galið er þetta og svo óábyrgt að engu tali tekur. Ýmis önnur kosningaloforð flokksins eiga án efa eftir að fara á spjöld sögunnar fyrir það hve óábyrg og óskammfeilin þau eru. Vilji kjósendur efla þau sjónarmið sem VG stendur fyrir þá skal hafa í huga að því ...
26. Maí 2006

Í gær fjallaði ég hér á síðunni um verðlaunaveitingar Halldórs Ásgrímssonar til fyrirtækja sem veita fátæku fólki styrki og sýna þannig miskunnsemi. Umfjöllunin hefur fengið sterk viðbrögð frá fólki sem heyrt hafði í útvarpi eða lesið í blöðum um þakkarskjölin sem forsætisráðherra afhenti og fengið sömu tilfinningu fyrir framgöngu ráðherrans og ég. Einn lesandi sendi mér úrklippu úr Mogga þar sem skilja mátti að það væri Halldór sem væri að veita viðurkenningu fyrir góðgerðastarf fyrirtækja en ekki Fjölskylduhjálpin, sbr. eftirfarandi...
26. Maí 2006

...Látum vera að samgönguráðherra vilji bakka sína menn upp fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann getur hins vegar ekki leyft sér að nota samgönguráðuneytið sem agn í þessari baráttu. Eða hvað er ráðherrann að gefa í skyn? Að hann muni hygla sveitarstjórnum þar sem sjálfstæðismenn eru við stjórnvölinn? Á ekki að láta málefnaleg rök ráða í afstöðu samgönguráðuneytisins? Er ráðherrann að láta að því liggja að sveitarfélög sem kjósa til áhrifa fólk sem ekki er á bandi með ráðherranum í stjórnmálaskoðunum verði látin gjalda fyrir slíkar syndir? Þetta gengur ekki Sturla! Þetta er misnotkun á pólitísku valdi...
26. Maí 2006

Í gærkvöldi sat ég kosningafund Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði og flutti ég þar ávarp. Það gerði einnig oddviti framboðsins, Bjarni Jónsson. Hann leiðir lista kröftugrar sveitar og ferst það einkar vel úr hendi enda hefur Bjarni til að bera rökvísi, staðfestu og lipurð í mannlegum samskiptum. Bjarni fór í ræðu sinni yfir stöðu mála og hvatti félaga okkar til sóknar á lokasprettinum. VG hefur setið við stjórnvölinn í Skagafirði undanfarið kjörtímabil ásamt Sjálfstæðisflokki en sveitarstjórinn, Ársæll Guðmundsson, kemur úr röðum VG. Hann ákvað að gefa ekki kost á sér á komandi kjörtímabili. Ársæll hefur ásamt félögum sínum unnið gott verk á liðnum fjórum árum og almennt er hægt að segja að Skagfirðingum hafi farnast vel á...
26. Maí 2006
...Lengi vel bar herferð framsóknarauðvaldsins engan árangur, fylgið bifaðist ekki. Síðustu daga hefur hins vegar sigið á ógæfuhliðina og á sjálfan uppstigningardag gerast þau ótíðindi að fulltrúi EXBÉ tekst skyndilega á loft, kemst í 6% fylgi í skoðanakönnun, og mun samkvæmt því brjóta sér leið inn í Ráðhúsið. Eins og útlitið er í dag eru því talsverðar líkur á því að peningamafíu Framsóknarflokksins muni takast að selja borgarbúum auglýsingahannaðan loforðapakka sinn. Og þeim mun verra er að nú virðist sú óskastaða upp komin í kortum milljarðamæringanna að þeir geti látið fulltrúa sinn ná nytinni úr borgarkúnum í notalegri og góðri samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn. Víst er að spjallið í því fjósinu mun ekki snúast um nein velferðarmál, það verður ekki einu sinni raupað eða hlegið á laugardagskvöldum að geggjuðum hugdettum eins og til að mynda flugvelli á Lönguskerjum. Nei, í því fjósi verður fyrst og fremst rætt um hörðu pakkana, Orkuveitu Reykjavíkur og annað bitastætt sem skella má upp á veisluborð einkavinanna og kostunaraðilanna...
Þjóðólfur
26. Maí 2006
Birtist í Morgunblaðinu 25.05.06
...Ég beini því til vinstrisinnaðra kjósenda í Reykjavík að íhuga hvaða árif það hefði haft í Reykjavík ef ekki hefði notið aðhalds af hálfu VG þegar áform voru uppi um að hlutafélagavæða Orkuveituna, þegar sala á hlut borgarinnar í Landsvirkjun var á döfinni, þegar húsnæðismál og félagsleg hagsmunamál hafa verið uppi og læt ég þá órætt um aðkomu borgarfulltrúa að Kárahnjúkamálum!
Samfylkingunni og VG hefur auðnast að vinna ágætlega saman. En við vitum hvor flokkurinn það er sem veitir þrýsting frá vinstri og þá einnig hvaðan blása hægri sinnaðri vindar...
25. Maí 2006
...það hefur gert R-listanum lífið leitt í mörgum málum meðal annars vegna þess að Ingibjörg Sólrún lúffaði alltaf fyrir hótunum Alfreðs um að fara með íhaldinu. Nú er Framsóknarflokkurinn farinn að leita eftir stuðningi með því að segja að það sé verra að Sjálfstæðisflokkurinn stjórni einn. Já, það er nefnilega það. Það þarf aðallega að hindra þann möguleika að a) Sjálfstæðisflokkurinn stjórni einn og b) að stjórnarflokkarnir hirði ráðhúsið. Hvort tveggja er jafnbölvað. Ef Framsókn kemur einum manni að og íhaldið sjö þá eru ...
Sigurður Bjarnason
25. Maí 2006

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, og formaður Framsóknarflokksins, kom fram í fréttum í vikunni í tilefni þess að Fjölskylduhjálpin hafði fengið hann til að afhenda 50 fyrirtækjum sérstakt viðurkenningarskjal fyrir að aðstoða fátækt fólk með peninga- og matargjöfum. Þessi athöfn fór fram í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík. Forsætisráðherra lýsti mikilli ánægju yfir þessari athöfn. Halldór Ásgrímsson sagði að í þjóðfélaginu færi skilningur nú vaxandi á því, á meðal ríka fólksins, að því beri að veita hinum snauðu ölmusu! Svona eins og í Ameríku þar sem góðu auðjöfrarnir gefa fátæklingunum af örlæti sínu. Fjölskylduhjálpin úthlutar matvælum, fatnaði, ungbarnavörum o.fl. til þurfandi fólks, einstæðra mæðra, forsjárlausra feðra, öryrkja, eldri borgara og efnalítilla fjölskyldna. Þetta er vissulega gott framtak. En hvað með þá sem búa til fátæktina? Þar vísa ég í...
24. Maí 2006

...Og upp í hugann kom annar langafi Silju, Stefán Ögmundsson prentari, í langan tíma forystumaður íslenskra prentara, um skeið varaforseti ASÍ, og einn magnaðasti baráttumaður félagslegra gilda sem ég hef kynnst; reyndar svo kröftugur að íhaldið lagði á sig allt sem mögulegt var til að reyna að eyðileggja líf hans og vísa ég þar í ljúgvitnin sem leidd voru fram gegn honum og Jóni Múla vegna atburðanna við Alþingishúsið 30. mars 1949, nokkuð sem orðið er aktúelt að nýju eftir upplýsingar um hleranir og ofsóknir á kaldastríðstímanum. Þetta voru hugrenningarnar...Svandís talaði um fortíðina, nútíðina og framtíðina. Hún talaði viturlega um fortíðina, vildi draga af henni lærdóma. Um nútíðina talaði hún af yfirvegun og einnig um framtíðina. Ég fékk það sterklega á tilfinninguna að þangað ætti Svandís erindi...
24. Maí 2006
...Já, mikil er dulúðin og meira að segja bakdyramegin. En hversu trúverðugur er vinstrimaðurinn góði, Össur Skarphéðinsson, einn af mínum uppáhalds stjórnmálamönnum, í þessum málflutningi sínum? Man Össur Skarphéðinsson virkilega ekki eftir því sjálfur í hvern hann hringdi daginn eftir síðustu alþingiskosningar eftir að hafa flaggað Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem forsætisráðherraefni í marga mánuði þar á undan? Er ekki rétt að rifja þá hringingu upp...
24. Maí 2006
Eins og ég á kyn til lifna ég allur við þegar peningar í eigin vasa eru annars vegar. Mig langar því að leggja örfá orð í belg undir lok kosningabaráttunnar og einkum vegna þeirra tilboða sem Björn Ingi Hrafnsson og hans ágæta exbé-framboð hefur gert mér og minni fjölskyldu í einföldum skiptum fyrir atkvæði. Fyrst vil ég víkja að því rausnarlega tilboði að senda okkur hjónunum 500 þúsund krónur eftir söluna á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Það er auðvitað engin spurning að svona pólitík kann ég að meta, kannast reyndar aðeins við hana úr pússi ...
Jón Bissnes
23. Maí 2006

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar skrifar umhugsunarverða grein í Morgunblaðið þar sem hún segir:
"Á laugardaginn verður kosið um næsta borgarstjóra í Reykjavík... Dagur B. Eggertsson borgarstjóraefni Samfylkingarinnar hefur lýst því yfir að það komi ekki til greina að gefa eftir borgarstjórasætið í samningum..." Úrslitakostirnir í huga formanns Samfylkingarinnar virðast með öðrum orðum snúast um stóla fremur en málefni. Athygli vekur að Ingibjörg Sólrún segir að á laugardag verði kosið um borgarstjóra. Ég hélt að við værum að kjósa um mismunandi pólitískar áherslur...
Samkvæmt síðustu könnunum stendur baráttan nú á milli 8. manns Sjálfstæðisflokksins og 3. manns á lista VG. Ef VG hefur betur og Þorleifur Gunnlaugsson nær kjöri, auk þeirra Svandísar og Árna þórs, er hættan á hreinum meirihluta Íhaldsins úr sögunni. Þetta væru mikil og góð tíðindi fyrir borgarbúa því þau hefðu pólitíska þýðingu. Hitt er dapurlegt að ...
23. Maí 2006
Nýjasta útspil Björns Inga Hrafnssonar...er loforð um að flytja Esjuna nær miðbænum nái hann kjöri í borgarstjórn n.k. laugardag. Með flutningnum vill hann mynda öflugan skjólvegg gegn norðanáttinni í Kvosinni og nágrenni...Degi B. Eggertssyni, borgarforingja Samfylkingarinnar, finnst hugmyndin spennandi. Hann telur þó rétt að setja málið fyrst í þverfaglegan rýnihóp og ...Ólafur helgi, oddviti Frjálslyndra og syndlausra, er algerlega á móti flutningnum enda sé fjallið náttúruminjar rétt eins og flugvallarperlan í Vatnsmýrinni. Þá undirstrikar hann sérstöðu Frjálslyndra og syndlausra í þessu sem og öðru og segir að...Græningjunum sé ekki treystandi í stóra Esju-málinu fremur en í öðru. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson telur flutninginn vel koma til greina enda geti með honum skapast ....
Þjóðólfur
22. Maí 2006
Svo getur farið að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verði borgarstjóri á sunnudaginn kemur ef hrakspár rætast. Hvað gerist þá?
1. Þá verður einkabíllinn aðalviðmiðun allra samgöngumála í borginni þrátt fyrir mengun og allt það pláss sem fer undir vaxandi umhverfismannvirki; mislæg gatnamót um allan bæ, og Hringbrautarskrímslið verður um allan bæ.
2. Þá verður leikskólinn ekki ókeypis.
3. Þá verða skólamáltíðir ekki ókeypis.
4. Þá verða frístundaheimili ekki ókeypis.
5. Það mun ekkert gerast í málefnum aldraðra því þau mál eru á hendi ríkisins sem hefur lagt hald á Framkvæmdasjóð aldraðra. Ríkinu stjórna Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn saman...
Sigurður Bjarnason
22. Maí 2006

...Það hljómar líka ágætlega þegar oddviti framsóknarmanna í Reykjavík segir að nái hann kjöri þá ætli hann að sjá til þess að sérhver Reykvíkingur fái kvartmilljón – 250 þúsund krónur – beint í vasann fyrir sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun...
"Ég held hins vegar", segir frambjóðandinn,
"að eigendurnir sjálfir séu síst verr til þess fallnir að ráðstafa söluhagnaðinum en stjórnmálamenn." Nú spyr Blaðið hvort Framsóknarflokkurinn sé með þessu að reyna að kaupa atkvæði með fjármunum borgarbúa....Auðvitað er það rétt hjá Birni Inga Hrafnssyni og Siv Friðleifsdóttur að framkoma ríkisstjórnarinnar við tekjulægsta hluta samfélagsins er svívirðileg og báðum flokkum ber að axla á henni ábyrgð. Í því ljósi má til sanns vegar færa að Sjálfstæðisflokkurinn sleppi of vel og að...
22. Maí 2006
Ég var að lesa pistil þinn um Jeltsínpólitík Framsóknarflokksins þar sem flokkurinn reynir beinlínis að kaupa sér atkvæði. Þú spyrð “Á hvaða vegferð er Framsóknarflokkurinn eiginlega?” Þarf að spyrja að því? Kjósendur geta ekki ætlast til neins af þeim flokki lengur, hann svíkur öll loforð, meira að segja kvartmilljónin mun aldrei skila sér. Sá leikur að lofa beingreiðslum við einkavæðingu er ekki nýr af nálinni. En hefur einhver orðið var við þær eða þá ávinninginn af einkavæðinginni? Ég held þær hafi líka ...
Haffi
22. Maí 2006
...Þetta kom upp í huga minn í morgun þegar ég fletti Morgunblaðinu og las grein eftir Össur Skarphéðinsson þar sem dylgjað er um meint daður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs við Sjálfstæðisflokkinn....Mér er þetta mál nátengt þar sem ég er í þriðja sæti á lista VG hér í Reykjavík og hef alla tíð verið fylgjandi vinstra samstarfi í borginni. Hins vegar neita ég því ekki að stundum hef ég þurft að taka mig á til þess að láta ekki skrif á borð við grein Össurar frá í morgun spilla samstarfsviljanum...
21. Maí 2006
Nýlega varð til nýr meirihluti í borgarráði og vakti athygli: Alfreð Þorsteinsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson. En þetta var ekki í fyrsta sinn; staðreyndin er sú að allt kjörtímabilið hefur þessi stjórnmálaflokkur látið á sér kræla í borgarstjórn eða allt frá því að Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihlutann 1994. Í borgarstjórn voru þá eins og kunnugt er tvær fylkingar; Sjálfstæðisflokkurinn og Reykjavíkurlistinn. Fljótlega varð til í einu og einu máli bandalag þeirra félaga. Það er ein skýringin á ofurvöldum Alfreðs Þorsteinssonar að Vilhjálmur hefur alltaf ...
Sigurður Bjarnason
21. Maí 2006

...Nokkrir aðilar höfðu verið fengnir til að bregðast við skýrslu Rauða krossins. Þeir nálguðust viðfangsefnið frá mismunandi sjónarhólum en rauður þráður í máli þeirra var fátæktin, mismununin og einagrunin. Enn eitt.
Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, sagði einkennandi að fátækt fólk sem ætti í mestum erfiðelikum
"byggi við veik félagsleg tengsl". Það væri með öðrum orðum eitt á báti. Þetta staðfestu flestir fyrirlesara.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, reið á vaðið með frábæru erindi, sem bar heitið,
Sá veit gjörst hvar skórinn kreppir sem hefur hann á fæti...Bragi sagði það vera umhugsunarefni, að hér værum við með niðurstöður úr könnun mjög sambærilegar niðurstöðum fyrir rúmum áratug og ekkert hefði breyst. Þetta vekti siðferðilegar spurningar: Lítur þjóðfélagið á fátækt sem hlutskipti þessara hópa,
"örlög sem ekki verði umflúin og því engin ástæða til að bregðast við?" ...Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, rak lestina...Hann kvað það vera daglegt brauð að hann hitti öryrkja sem brotnuðu saman yfir eymd sinni. Hann sagði að við værum að nálgast úrslitastundu:
"Rotnandi burðarbitar samfélagsins eru að gefa sig." Hinir fátæku væru að gefast upp á samfélagi sínu. Búast mætti við andfélagslegri hegðun í vaxandi mæli. Þetta yrðu
"ekki kurteisleg samskipti" að hætti verkalýðshreyfingar,
"sem bæði um lögregluleyfi til að fá að mótmæla"...
20. Maí 2006
Hvernig stendur á því að dagblöðin - hvorugt, því nú eru þau bara tvö sem er hryllilegt - og ljósvakamiðlarnir - sem eru undir nákvæmlega sömu valdaklíkunum og þessi tvö dagblöð sem eftir eru - birta ekki staf úr stórmerkri athugun Múrsins á aulýsingamagni i fjölmiðlum fyrir þessar kosningar? Það er greinilega hagsmunamál þeirra beggja að ...
Sigurður
20. Maí 2006
Fyrir fáeinum dögum vísaði ég hér á síðunni í afar athyglisverða könnun sem vefritið MÚRINN hefur gengist fyrir á auglýsingakostnaði stjórnmálaflokkanna fyrir komandi kosningar. Sannast sagna hélt ég að þessi athugun múraranna yrði stórfrétt. Tengslin á milli peninga og stjórnmála eru að sjálfsögðu pólitísk, þau snerta meira að segja kjarnann í lýðræðinu. Peningarnir geta nefnilega drepið lýðræðið. Andstæðan við lýðræðið er ekki bara einræði heldur einnig auðvald; vald þeirra sem hafa fjármagnið með höndum. Barátta á flettiskiltum, í heilsíðuauglýsingum blaða og tímarita og í útvarps- og sjónvarpsauglýsingatímum kostar mikla fjármuni. Hætt er við því að þeir sem veita stjórnmálaflokkum óheftan aðgang að þessum auglýsingaheimi með miklum fjáraustri eigi síðar meir hönk upp í bakið á þeim. Þegar það gerist...
19. Maí 2006
Mér finnst einkennilegt að jafnvel þeir sem hafa umfjöllun um peninga að atvinnu skuli botna jafnlítið í þeim: Trúlítill ritstjóri Jón G. Hauksson ritstjóri er stórhneykslaður. Hneykslunarefnið er áskorun Þjóðarhreyfingarinnar til stjórnmálaflokkanna um að taka höndum saman og auglýsa ekki í ljósvakamiðlum fyrir komandi sveitarstjórnarskosningar. Jafnframt áskoruninni bendir Þjóðarhreyfingin á leiðir til að tryggja að sjónarmið þeirra sem hafa takmarkaðan aðgang að peningum komist að í ljósvakamiðlum til jafns við sjónarmið annarra. Ljósvakamiðlar eru tilteknir sérstaklega vegna þess að þeir eru þegar háðir leyfum og skilyrðum sem aðrir miðlar eru ekki; þeir eru takmörkuð gæði. Auk þess eru þeir dýrir auglýsingamiðlar og áhrifamestir. Þetta sjónarmið er uppi víða um heim þótt ekki finnist það í hugarheimi...
Hjörtur Hjartarson
19. Maí 2006
Þakka þér ábendinguna Ögmundur minn varðandi fjarveru þeirra félaga Björns Inga og Dags B. Eggertssonar á fundi ungliða í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og SFR sem fram fór síðastliðið miðvikudagskvöld. Kvaðst ég hafa “fyrir því nokkuð traustar heimildir að þeir hafi báðir legið yfir sjónvarpinu og horft á viðureign Arsenal og Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.” Ef þetta er rangt eins og þú segir í athugsemd, þá er sjálfsagt að biðjast afsökunar á því. Þá er það hárrétt hjá þér að stjórnmálamenn geta verið, og hafa fullan rétt á, að vera forfallaðir eða veikir eins og aðrir. Og þegar...
Helgi Þ.
19. Maí 2006
Kosningabarátta Vinstri grænna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 27. maí hefur hvarvetna gengið vel. Skoðanakannanir sýna að flokkurinn er alls staðar í sókn og bætir verulega við sig fylgi og tvöfaldar það sums staðar frá kosningunum fyrir fjórum árum. Það er mjög ánægjulegt þó að auðvitað hrósi maður fyrst happi að loknum kosningum þegar við sjáum hvað kemur upp úr kjörkössunum.
19. Maí 2006

Í morgun birtist könnun Fréttablaðsins sem gefur til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn fengi rétt undir helming atkvæða í Reykjavík. Ekki er ég trúaður á að þetta eigi við rök að styðjast. Erfitt á ég með að ímynda mér að nær helmingur borgarbúa vilji afhenda borgina Sjálfstæðisflokknum til ráðstöfunar næstu fjögur árin. Við skulum minnast þess að þetta er sami stjórnmálaflokkur og stýrir landinu í samvinnu með Framsókn; sami flokkur og selt hefur og gefið verðmætar almannaeignir, keyrt upp verðlagið á raforku með rándýrum miðstýrðum ákvörðunum og aukið kjaramisréttið í þjóðfélaginu. Vilja menn þessar áherslur inn í Ráðhúsið? Og hver skyldi helst vera mótvægi við þessa stefnu? Það er tvímælalaust Vinstrihreyfingin grænt framboð. Nú ríður á að hefja lokasókn kosningabaráttunnar. …
Í grein sem
fomaður VG, Steingrímur J. Sigfússon, birtir hér á síðunni í dag minnir hann á að Vinstrihreyfingin – grænt framboð bjóði fram V-lista á 13 stöðum á landinu, en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum hafi þeir verið 8 talsins.
Þetta eru mikil og góð þróun og henni þarf að fylgja eftir af staðfestu og krafti. Ég er sannfærður um að ef á að takast að rífa samfélagið upp úr misréttishjólförunum, og beina þróuninni inn í heillavænlegri farveg, verður að efla Vinstrihreyfinguna grænt framboð. 18. Maí 2006
...Ungir og glæsilegir fulltrúar framboðanna fimm í Reykjavík gerðu grein fyrir ýmsum stefnumálum flokka sinna. Stóðu sig allir vel en sérstaklega fannst mér ánægjulegt að hlusta á málflutning Bolla Thoroddsen frá Sjálfstæðisflokki og Katrínar Jakobsdóttur varaformanns Vinstri grænna. Fram kom m.a. í máli Bolla hvernig uppeldisaðstæður geta stuðlað að óæskilegri pólitískri mótun en hann ólst t.d. upp við þau afarkjör að vera skikkaður til að blása linnulítið í rauðar blöðrur á flokkskrifstofum A-flokkanna sálugu, fyrst Alþýðubandalagsins og síðan Alþýðuflokksins. Er vonandi að Bolli fái sem fyrst nóg af blæstrinum í bláu blöðrurnar í Valhöll og snúi sem fyrst aftur og heim í heiðardalinn. Að framsögum loknum var svo gefinn kostur á fyrirspurnum úr sal. Fjarvera borgarstjóraefnanna tveggja kom nokkuð á óvart og spurði einn fundargesta hvar Björn Ingi væri eiginlega niðurkominn, kvaðst enda mættur á staðinn til þess að fá nánari útlistanir á boðuðu skautasvelli Framsóknarforingjans á Perlunni...
Helgi Þ.
18. Maí 2006

Hvað á maður eiginlega að halda eftir að Landspítalinn Háskólasjúkrahús fær lof og prís frá ríkisstjórninni fyrir afburða góða frammistöðu einn daginn en fáeinum dögum síðar er lýst yfir neyðarástandi á sömu stofnun? Enn mátti heyra óminn af hástemmdum yfirlýsingum Sivjar Friðleifsdóttur, heilbrigðisráðherra, þar sem hún lýsti því yfir að spítalinn hefði náð stórkostlegum árangri, átti vart orð til að lýsa hrifningu sinni yfir ráðdeildarsemi forsvarsmanna sjúkrahússins, þegar hún mætti að nýju í fjölmiðlana til að segja þjóðinni að sem betur fer væri til neyðaráætlun fyrir sjúkrahúsið og hafi nú verið gripið til hennar! Reksturinn væri með öðrum orðum kominn í slíkar ógöngur að grípa þyrfti til neyðarúrræða. Ekki ætla ég að gera lítið úr árangri stjórnenda sjúkrahússins í bókhaldskúnstum og hagræðingu við erfiðar aðstæður. Neyðarástandið á Landspítalanum er ...
17. Maí 2006

Undir það skal tekið með vefritinu Múrnum að
á meðan leynd hvílir yfir sjóðum stjórnmálaflokka er líka hægt að hafa áhyggjur af samskiptum peningamanna og stjórnmálamanna. Múrinn hefur látið fyrirtækið Auglýsingamiðlun taka saman tölur um áætlaða eyðslu stjórnmálaflokka vegna komandi kosninga til sveitarstjórna. Í þessari áætlun er ekki að finna mat á kostnaði við gerð bæklinga og auglýsinga, leigu á jeppum, flettiskiltum, né neinum þeim varningi sem framboðin bjóða upp á. Einungis er um að ræða birtingar í stærstu fjölmiðlum landsins þannig að hér eru á ferð algjörar lágmarkstölur um kostnaði við kynningarstarf flokkanna. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar. Mestur er auglýsingakostnaður Framsóknarflokksins, á hæla hans kemur Sjálfstæðisflokkurinn en...
16. Maí 2006
...Það eru kreddur að útiloka eitthvað vegna þess að það fellur ekki að einstrengingslegum hugsunarhætti Vinstri grænna. Það þarf að auka þau störf sem borga vel, það þýðir meiri tekjur í vasann á almennu verkafólki og jafnframt meiri tekjur fyrir fjárvana sveitarfélagið. En félagi Ögmundur má ekki til þess hugsa að fólki úti á landi sé borguð mannsæmandi laun. Félagi Ögmundur má ekki til þess hugsa að úti á landi fari fram atvinnusköpun. Af hverju? Ég held að það sé út af því að Vinstri grænir eru í eðli sínu óánægjuframboð. Þeir þrífast best á...
Jón Einarsson
16. Maí 2006
...Að hætti Cato gamla, rómverska stjórnmálamannsins, frá því í árdaga, sem endaði allar sínar ræður á að leggja til að Karþagó yrði jöfnuð við jörðu – klifa þessar sendinefndir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á því að allt sem er á skjön við hagsmuni fjármagnsins verði látið víkja. Og á þá leið var boðskapur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins orðaður í fjölmiðlum í dag: Mikilvægt er að Íbúðalánasjóður verði lagður niður hið allra fyrsta!
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn virðist gefa lítið fyrir hag neytenda en þeim mun meira fyrir hagsmuni fjármagnsins. Síðast komu þessir sérfræðingar, að því er ég best veit, um miðjan júní á síðasta ári. Einnig þá voru þeir samir við sig og vildu leggja Íbúðalánasjóð niður. Um þá heimsókn skrifaði ég hér á heimasíðuna og minnti á...
15. Maí 2006

Í dag fer fram í Reykjavík ráðstefna í nafni tímaritsins The Economist um orkulandið Ísland, sem býður upp á ódýra orku og skattafslátt til auðhringa sem vilja láta svo lítið að stinga niður fæti í boði ríkisstjórnar Íslands. Einn af styrktaraðilum ráðstefnunnar er álframleiðandinn Alcoa, sem talað getur af reynslu um örlæti ríkisstjórnar Halldórs Ásgrímssonar. Sjaldan hefur íslensk ríkisstjórn lagst eins lágt og sú sem nú situr gagnvart auðvaldi erlendu og innlendu. Ráðstefnan í dag er eins konar opinberunarráðstefna þessarar niðurlægingar. Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs var boðið að sækja ráðstefnuna en afþakkar boðið í opnu bréfi sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar segir formaður VG meðal annars...
15. Maí 2006
Ég hef ábendingu til þín fremur en spurningu í framhaldi af umfjöllun þinni "Sadistar í sjónvarpi" hér á síðunni nýlega. Ef þú horfir á nokkra þætti í sjónvarpinu, Rúv, Skjá einum, eða öðrum rásum, þá snúast þeir að miklu leyti um niðurlægingu. Alls kyns keppni þar sem fólki er hafnað, verið að velja kvonfang, eyðileggja efnilega tónlistarmenn og gvuð veit hvað. Þetta er lengi búið að ...
Sigga
14. Maí 2006

...Þess vegna þurfa menn að horfa til reynslunnar, leiða hugann að því sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafa sagt fyrir kosningar og síðan eftir kosningar. Þeir sem vilja standa vörð um náttúruna og fjölbreytni í atvinnulífi geta óhræddir kosið Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Vinstri græn í Skagafirði hafa sýnt fram á að flokknum er treystandi við stjórnvölinn. Ég fagna að sjálfsögðu öllum yfirlýsingum – hvort sem þær koma frá sjálfstæðismönnum, fulltrúum Samfylkingar eða Framsóknar - þar sem boðað er fráhvarf frá virkjunar- og stóriðjuáfergjunni.
Vilji menn hins vegar geta treyst stjórnmálamönnunum út kjörtímabilið hvað þetta áhrærir – þá er bara eitt að gera: Kjósa Vinstrihreyfinguna grænt framboð...14. Maí 2006
Má reka Íslendinga úr vinnu og ráða útlendinga í staðinn? Því miður er þessi staða komin upp í dag á íslenskum ...
Valgerður
14. Maí 2006
Þakka þér fyrir ágæta grein þína um stjórnmál í Skagafirði. Þú fagnar meintum sinnaskiptum sjálfstæðismanns í virkjunar- og stóriðjumálum og vitnar í því sambandi í skrif Páls Dagbjartssonar, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins á Skagafjarðarvefnum, skagafjörður.com. Ég vek athygli þína á að Páll er ekki andvígari þessum stóriðjuáformum en svo, að hann talar enn fyrir virkjunum, sbr. eftirfarandi ummæli...
Tónninn í Samfylkingunni, sem hefur stutt virkjunar- og stóriðjuáformin til þessa, er sá, að nú séu stóriðjuáform ekki á dagskrá þannig að umræðan sé ekki aðkallandi, Sjálfstæðisflokkurinn er í raun með sömu áherslur, sbr. "slakann" í umræðunni sem Páll Dagbjartsson talar um og þú gerir að umtalsefni. Framsókn segir lítið en allir þekkja hjartsláttinn í þeim flokki. Allt ber að sama brunni...
Skagfirðingur
13. Maí 2006
....Ætlast Lönguskerjapólitíkusar til að um það verði sátt? Eiga „samræður” um pólitík að leiða til þess að stórum þjóðfélagshópum er haldið á ósæmilegum lífskjörum meðan aðrir maka krókinn sem aldrei fyrr? Þannig mætti endalsust halda áfram að telja upp mál sem engin ástæða er til allir séu sáttir við. Stjórnmál snúast meðal annars um að menn reyni að koma einhverju í verk, eins þótt einhverjir – jafnvel margir – séu fullkomlega ósáttir. Er þá reyndar komið að framlagi Einars Odds Kristjánssonar í fjölmiðlum 12. maí en hann sagði nokkurn veginn þetta þegar hann lýsti áhyggjum sínum af verðbólgunni. „Engin verkefni eru svo þýðingarmikil að ekki megi fresta þeim.” Um það er fjallað á öðrum stað...
13. Maí 2006
...Vænst þótti mér um skýra afstöðu hans í velferðarmálum. Það er alveg rétt hjá Hugin að alltof mikið er hugsað um steinsteypu og skipulagsmál í Reykjavík og ekki nægjanlega hugsað um félagslegt réttlæti. Við blasir vandi í velferðarkerfinu eins og við öllum þekkjum. Því er nauðsynlegt að huga að þeim málaflokkum eins og reyndar félag eldri borgara og Öryrkjabandalagið hafa bent á. Stjórnmálaflokkar þurfa að...
Bergþóra
13. Maí 2006
...Svandís hefur náð að leggja línurnar í kosningabaráttunni og haft algjört frumkvæði í umræðum um menntamál, umhverfismál og skipulagsmál. Hinir flokkarnir elta svo VG, Dagur er farinn að tala um gjaldfrjálsan leikskóla, Vilhjálmur um flugvöll á Hólmsheiði og allir flokkarnir þykjast vera umhverfissinnaðir. Spurningin er bara hversu trúverðugir þeir eru...Mér finnst samt alvarlegra mál hvernig Framsóknarmenn reyna nú í örvæntingu að varpa rýrð á valinkunna embættismann sem hafa unnið að stefnumótun varðandi nýjan flugvöll á Hólmsheiði. Þar á meðal Helgi Hallgrímsson, fyrrverandi vegamálastjóri...
Steini H.
13. Maí 2006
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður, og einn helsti talsmaður atvinnurekenda um árabil, hefur hafið upp raust sína til að vara við vaxandi verðbólgu. Hann beinir varnaðarorðum fyrst og fremst til hins opinbera, ekki vegna stóriðjustefnunnar, þótt til hennar megi fyrst og fremst rekja hækkandi vexti, vaxandi verðbólgu og þenslu, heldur beinast orð hans einkum að því að vara við því að ríki og sveitarfélög bæti launakjörin hjá sínu fólki – þá sé voðinn vís. Helgi Guðmundsson, fyrrum verkalýðsforkólfur og Þjóðviljaritstjóri, núverandi rithöfundur og ritstjóri Þjóðviljans á Skaganum, skrifar einkar athyglisverðan pistil í dag um þetta efni. Helgi segir m.a...
12. Maí 2006
...Og eins og myndin sýnir er Hummerinn líka tákn fyrir lítilsvirðingu Framsóknar fyrir öryrkjum. Hann er lýsandi tákn fyrir hrörnun Framsóknaflokksins sem ekki vil kannast við sjálfan sig eða fortíð sína. Um framtíðina á heldur ekki að hugsa – það á bara að framkvæma - og eitt dæmi um þá stefnu í verki er einmitt Hummerinn – ef þú slærð um þig á nógu flottum bíl þá hlýtur pöpulinn að heillast. Ertu ekki með?
Fyrrum framsóknarmaður
12. Maí 2006
Birtist í Morgunblaðinu 11.05.06
...Margt ágætt var sagt í Morgunblaðinu í aðdragandanum að 1. maí. Það er eins og blaðið hafi misst sig í kjölfarið. Ágæta grein skrifaði hins vegar ungur frjálshyggjumaður í Fréttablaðið og tók hann – á sinn hátt - upp hanskann fyrir verkalýðshreyfinguna. Kvaðst hann hafa verið sæmilega nestaður úr foreldrahúsum á Siglufirði í uppvextinum um málefni verkalýðshreyfingarinnar. Síðan hafi hann komið suður og lært að meta hin borgaralegu gildi, þar með talið sjálfa brjóstvörnina, Morgunblaðið, sem nú hafi hins vegar brugðist bogalistin í umfjöllun um 1. maí. Þetta er ...
12. Maí 2006
Við vorum að ræða það vinkonurnar yfir grillinu í blíðunni hvernig Davíð Oddsson plummaði sig í Seðlabankanum. Ein okkar var viss um að hann væri í sínu besta stuði. Önnur sagðist vita það í gegnum mág sinn, en ég var ekki viss. Ég var alltaf svolítið svag fyrir honum í menntó og kaus hann í borginni, en mér fannst hann svíkja þegar hann flutti sig yfir á Lækjartorg og hætti því. Hann var að vísu...Hagstjórnin er í molum, Seðlabankinn bilaður og efnahagsbyltingin étur börnin sín. Hvernig stendur á því Ögmundur að þið í stjórnarandstöðunni gerið ekki athugasemdir við faglega getu Seðlabankans til að sinna hlutverki sínu? Ég spyr af því þú veist að...
Ólína
12. Maí 2006
Allt fram undir að Steingrímur Hermannsson hætti að leiða framsóknarmenn á landsvísu hafði það merkingu að tala um að flokkurinn væri "opinn í báða enda". Þetta þýddi meðal annars að stundum töldu forustumenn framsóknarmanna að þeir þyrftu að vinna með hægri mönnum og stundum var "allt betra en íhaldið" og þá var unnið til vinstri. Tvíeðli framsóknar birtist okkur dauðlegum sem ...Víðast hvar bjóða framsóknarmenn fram undir merkjum B listans og víða virðast þeir standa sæmilega. Í Reykjavík býður flokkurinn ekki fram undir merkjum B lista heldur undir merkjum ex-B, eða fyrrverandi Framsóknarflokks. Verður ekki að hæla aðstoðarmanni forsætisráðherra fyrir hreinskilnina, að lýsa yfir andláti flokksins fyrirfram. Ex-B, ex-Björn, ex-wife. Þetta er alveg ný útgáfa af tvíeðlinu; Framsókn og ex-Framsókn.
Stefán
12. Maí 2006
Ég spyr hvort þér finnist við hæfi að birta nafnlausar dylgjur og skítkast í garð Framsóknarflokksins í Reykjavík á heimasíðu þinni. Þú mátt þó eiga það að þú skrifar undir þitt skítkast þó ekki skáni það mikið við það...
Stefán Bogi Sveinsson
11. Maí 2006

...En þetta er bara önnur hlið málsins. Einnig er hægt að líta á þessi átök sem togstreitu á milli almannahagsmuna og einkahagsmuna. Þessi hlið mála verður augljósari eftir því sem jarðir hafna í höndum auðmanna – sem síðan reisa girðingar og merkja vegarslóða sem einkavegi. Þegar það síðan birtist okkur í ofanálag að átökin standa um margar fegurstu náttúruperlur landsins, skýrist það í hugum okkar margra hve mikilvægt það er að tryggja almannahaginn. Í kvöld birtist í fréttum að Hæstiréttur hefði kveðið upp úr um að Jökulsárlón væri almannaeign að mestu leyti! Á meðan landið er nytjað af bændum – þess vegna leigt og selt – og hagnaðurinn rennur í þeirra vasa, er samúð okkar flestra með þeim. Þegar eignarhaldið er hins vegar...
11. Maí 2006
...Ríkisútvarpið var eitt sinn fjölmiðill sem rökstyðja mátti að stæði undir nafni, en ríkisútvarpið eins og það er rekið nú er að mínum dómi að verða eins og skæri í höndum óvita. Það er nánast gefið að hann slasar bæði sig og aðra svo klaufalega sem hann beitir tólunum sem menn og konur fengu honum og eftir er að kvitta fyrir. Í þessu ljósi er ekki víst að þeir stjórnmálamenn sem þágu kynningarboð útvarpsstjóra í haust þægju þau nú, en þeir ættu kannski að segja frá þeim nú. Ég veit ekki með þig Ögmundur en mér stendur ógn af því sem ég hef séð til samstarfs sjónvarpsins og Morgunblaðsins undanfarna daga. Jafnvel Gestir í sjónvarpssal fá ekki rönd við reist. Í þessu sambandi verða allir svínabændur...
Ólína
10. Maí 2006

...13 stúlkur voru látnar koma fram, sýna sig á sviði og í alls kyns stellingum. Í panel sátu síðan þrír eða fjórir matsmenn og dómarar og gáfu einkunnir fyrir göngulag og geiflur. Einkunnagjöfinni fylgdu ónærgætin ummæli um framkomu og sköpulag. Þáttastjórnandinn skýrði okkur áhorfendum frá því að til stæði að velja hverjar 12 stúlkur kæmust áfram og hver ein stúlka yrði send heim með skömm. Þessu var síðan fylgt eftir. Áhorfendur fengu að sjá tilfinningaþrungin svipbrigðin í andlitum stelpnanna þegar þær hver af annarri fengu náð og leyfi að halda áfram á frambraut þessa auvirðilega þáttar. Fórnarlambið sem valið hafði verið úr til aftöku var síðan sýnt tárvott í þáttarlok. Þetta er ekki saklaus skemmtun þetta er...
10. Maí 2006
...Síðan segir Geir Haarde, hæstvirtur utanríkisráðherra, að koma þurfi ,,viti fyrir stjórnvöld í Íran". Eru menn hreinlega gengnir af göflunum? Ætla íslensk stjórnvöld virkilega að styðja Bandaríkjastjórn í þessu máli eftir allt sem á undan er gengið í Írak? Ég treysti því Ögmundur að Vinstri Grænir taki skýra afstöðu í þessu máli og tali harkalega gegn öllum áætlunum um að beita vopnavaldi gegn Íran. Að lokum vil ég segja að fólk ætti ekki að gleyma því að Íranir hafa ekki haft í hótunum við nokkurt ríki eins og margir fjölmiðlar hafa haldið fram síðustu misseri, heldur hafa þeir einungis sagt að þeir muni verja sig ef á þá verði ráðist. Eins og svo oft áður eru það aðeins...
Sigurður Þ.
10. Maí 2006
Það var sem mig grunaði að annað hvort hefði það verið fatlaður starfsmaður Framsóknarflokksins sem lagt hefði Hummer-jeppanum í stæði fatlaðra við Rimaskóla á dögunum eða, sem náttúrulega var vel til í dæminu, að ungur sjálfboðaliði – einhver sem ekki kynni á siðareglur flokksins og algert bann hans við að leggja í stæði fatlaðra, hefði fallið í þá gryfju að parkera á þennan hátt. Nú hefur komið á daginn að einmitt hið síðara gerðist eins og fram kemur í sérstakri yfirlýsingu frá ex-bé í Reykjavík. Þar er vísað í “Það leiðinlega atvik” þegar ”ungur sjálfboðaliði á vegum framboðsins...
Haffi
9. Maí 2006
...Orðrétt sagði ég m.a.: “Þannig boðar Framsóknarflokkurinn nú “sjóminjasafn á Grandagarði”, safn sem var formlega opnað með pompi og prakt fyrir ári síðan, einmitt á þeim stað sem Framsóknarframboðið telur ákjósanlegan. Þeim mun meira kemur þetta á óvart þar sem forstöðumaður Sjóminjasafnsins heitir Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknar, en stöðuna fékk hún að sjálfsögðu án þess að borgaryfirvöld létu svo lítið að auglýsa starfið. Þetta hefðu nú Björn Ingi og félagar átt að vita en þeir hafa kannski ekki lesið stefnuskrána nægilega vel enda í mörg horn að líta þessa dagana.” Nú hafa þau tíðindi gerst að EXBÉ hefur leiðrétt kúrsinn í sjóminjasafns-málinu. Stefnuskráin hefur breyst. Í dag les ég nefnilega, ef marka má endurbætta netútgáfu stefnuplaggsins um þetta mál að framsóknarmenn hafa fallið frá því að byggja “sjóminjasafn á Grandagarði”, nú er boðuð “Stækkun Sjóminjasafns á Grandagarði.” Aðstandendur EXBÉ virðast hafa áttað sig á því að ekki er hægt að bjóða kjósendum upp á ýmsa “smávægilega” feila, rangfærslur ef ítrustu kurteisi er gætt í orðavali, því auðvitað hlýtur fólk að spyrja: hvað liggur að baki stóru stefnumálunum fyrst sláandi óvandvirkni og flumbrugangur blasir meira segja við í þeim málum sem ...
Þjóðólfur
9. Maí 2006

...Látum vera að Framsókn vilji malbika Skerjafjörðinn. Það er sjónarmið út af fyrir sig eins fráleitt og það kann annars að vera. Ef flokkurinn telur það hins vegar vera rétt að gera flugvöll á Lönguskerjum þá er eðlilegt að hann taki skýra afstöðu og berjist síðan fyrir henni. En að láta það fylgja með í pakkanum að flokkurinn lofi því að um malbikaðan Skerjafjörð verði þjóðarsátt - er náttúrlega svo yfirgengilega absúrd að tekur engu tali. Slíku getur enginn stjórnmálaflokkur lofað. Framsókn hefur ekki verið vönd að virðingu sinni í auglýstum kosningaloforðum sínum í undangengnum kosningum og eru menn orðnir ýmsu vanir þegar sá flokkur er annars vegar. Kemur þá upp í hugann Ríkisútvarpið, sem aldrei átti að verða að hlutafélagi samkvæmt heitstrengingum Framsóknar og Íbúðalánasjóður, sem okkur var sagt að hvíldi í öruggum faðmi Framsóknar en er nú að berjast fyrir lífi sínu. Framsókn hefur þannig í tímans rás sýnt kosningaloforðum sínum takmarkaða viðingu. Að því marki sem flokkurinn á annað borð virðir leikreglur þá...
8. Maí 2006
...Í 9.grein þess frumvarps er talað um að veita Vegagerðinni lögregluvald til að stöðva, rannsaka,og sekta bíla á þjóðvegum landsins. Ég hef sjálfur verið stöðvaður af þeim, þar sem ég ók vörubíl , og var sektaður fyrir að vera of þungur , og var ekki boðin lögregla eða að fá lögfræðing á staðinn. ...Og svo ég spyr í allri minni hógværð , hver er yðar skoðun á þessu...
Halldór Sigurðsson
8. Maí 2006

...Að sjálfsögðu á að ræða þessi mál. Og það á að sjálfsögðu að gera
„af yfirvegun“ og helst
„án alls fjandskapar“. Hvorugt gerir Morgunblaðið í þessum ívitnuðu skrifum. Í fyrsta lagi er á það að líta að ræður sem fluttar voru 1. maí að þessu sinni voru, eftir því sem ég hef heyrt og lesið, almennt alvöruþrungnar og innihaldsríkar og fráleitt allt tal um að þær hafi ekki átt erindi til samtímans. Eða var tal formanns Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, ræðumanns BSRB á Ingólfstorgi, um vaxtabætur og kjör fólks sem er að koma yfir sig húsnæði innihaldslaust píp, eða skyldi þar ekki fara maður sem talar máli þúsunda launamanna? Ég tel svo hafa verið. Var óviðurkvæmilegt af hans hálfu að minnast á einkavæðingarfárið og nefna sérstaklega – ýmsa grunnþætti samfélagsins, vatnið, rafmagnið, velferðarþjónustuna og hugmyndir forsætisráðherrans um að einkavæða eldvarnir á alþjóðaflugvellinum í Keflavík? Átti hann að...Var Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, svo áfram sé haldið, ef til vill ekki að fjalla um brennandi mál þegar hún beindi sjónum að erlendu vinnuafli og hvernig íslenskum stjórnvöldum og vinnumarkaði bæri að bregðast við...
7. Maí 2006
...Ég er sammála Hljóðólfi að það megi alls ekki byggja flugvöll á vatnsverndarsvæðinu, og er furðulegt að náttúruverndarfélagið “Vinstri Grænir” skulu láta sér detta slíkt í hug. Ég minnist þess þegar eitt olíufélaganna vildi byggja bensínstöð við þjóðveginn fyrir neðan Geitháls. Þá urðu ýmsir sem þekkingu höfðu til að bera til að mótmæla þessari bíræfni svona nálægt Gvendarbrunnum og vatnssvæðinu umhverfis þá. Gagnrýnendur höfðu betur enda byggðu þeir á þekkingu. Sem betur fer var sú tíðin þá að menn létu segjast ef rökin voru fyrir hendi! Hér tala ég af nokkurri reynslu...Annað sem ég tel að væri ekki svo vitlaust Ögmundur; er að nítísku “sporvagnar” sem “héngu á einum teini” (“Monorail”) í hvora átina væru lagðir “strax” á milli Keflavík til Reykjavíkur, með afleggjara til flugvallarins og viðkomustað á ýmsum þéttbýliskjörnum á leiðinni. Þetta mundi þjóna flugvellinum, og öllu svæðinu allt frá Suðurnesjum upp í Kjós...
Helgi
5. Maí 2006

...Ríkisstjórn Íslands hefur fylgt Bandaríkjastjórn eins staðfastlega og rófa fylgir hundi. Í samræmi við það er sú staðreynd að það virðist engin áhrif hafa á þann ásetning ríkisstjórnarinnar að leita ásjár hjá Bandaríkjastjórn þótt hún hafi ítrekað orðið uppvís af stríðsglæpum, pyntingum á föngum, stórfelldum mannréttindabrotum, lygum og fölsunum. Sem betur fer er heiðvirt fólk í Bandaríkjunum að rísa upp gegn þessum óþjóðalýð. Þar má nefna Ray McGovern, sem í 27 ár starfaði með bandarísku leyniþjónustunni CIA. Hann hefur í ræðu og riti sakað núverandi valdhafa Bandaríkjanna um að hafa beitt stórfelldum lygum í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Á fundi í Atlanta í Bandaríkjunum nýverið, spurði hann Donald Rumsfeld "varnarmálaráðherra" Bandaríkjanna, hvers vegna hann hefði logið því að hann hefði vitneskju um tilvist gereyðingarvopna í Írak. Rumsfeld svaraði því til, að hann hefði engu logið, stjórnina hefði hins vegar grunað að Írakar hefðu gereyðingarvopn undir höndum. McGovern sagði ráðherrann hafa staðhæft árið 2003 að ríkisstjórnin hefði...
5. Maí 2006
Ég tók eftir því nú um daginn að nýjustu skoðanakannanir hér og í Bandaríkjunum um vinsældir forvígismanna, sýna að foringi íslensku ríkisstjórnarinnar Halldór Ásgrímsson hefur minna traust hjá sinni þjóð í skoðanakönnunum en Bush Bandaríkjaforseti nýtur í Ameríku og þykir það þó ekki mikið. Stríðsrekstur Bush, Rumsfeld og félaga í Írak og Afganistan er sem kunnugt er að kosta Bandaríkjamenn óhemju peníng og þúsundir ungra Bandaríkjamanna hafa látið lífið. Eitthvað af óvinsældum Halldórs kann að stafa af því að hann...Helst að maður hafi áhyggjur af því að Framsókn takist að fela sig á bak við x-b og Sjálfstæðisflokkurinn komist upp með að þykjast nú mikill vinur gamla fólksins. Hvað er hægt að gera Ögmundur til að ...
Gaui
5. Maí 2006
...Ég hef verið búsett í Bandaríkjunum í nokkur ár og kann ekkert nema gott um land og þjóð að segja. Ég sendi ykkur heima á Fróni litla myndasyrpu af nokkrum forsetum Bandaríkjanna fyrr og nú þar sem gamansamur “listamaður” hefur sett þá í eins konar drag-gervi. Þetta á engan að meiða og er hugsað til gamans.
Kveðja,
Guðrún N.
5. Maí 2006
Finnst þér í lagi að byggja flugvöll á Hólmsheiði í næsta nágrenni við vatnsverndarsvæði okkar? Er þetta ekki tvískinnungur VG í hnotskurn? Væntanlega birtirðu ekki gagnrýnisbréf frá lesendum bara gagnrýni á aðra en ég sendi þér þetta ...
Hljóðólfur
3. Maí 2006
Hvað vakir fyrir þeim sem vilja telja fólki trú um að örfáar sálir hafi mætt í kröfugönguna 1. maí í Reykjavík að þessu sinni? Fjögur hundruð manns hafi verið í göngunni, átta hundruð á baráttufundinum á Ingólfstorgi, sagði Útvarpið að kvöldi dagsins, Blaðið át þetta síðan upp daginn eftir og síðan kjamsar einhver fréttmaður á Fréttablaðinu á þessu rugli í blaði sínu í dag. Það vill nú svo til að ég var í göngunni og þegar ég var í Bankastræti og horfði niður eftir Austurstræti var þar múgur og margmenni og gangan að fara inn á Ingólfstorgið. Þá átti öll hersingin eftir að ...Að mínum dómi var dagurinn einstaklega vel heppnaður – enda tóku þúsundir þátt.
Kristín
2. Maí 2006

...Svipað var upp á teningnum í fyrra því einnig þá var fréttaflutningurinn fjarri öllum sanni og áhersla margra fjölmiðla greinilega að gera lítið úr þeim fjölda sem tók þátt í útifundi verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Þess má geta að áætlað er að komið hafi sjö hundruð manns í 1. maí kaffi BSRB í gær og hef ég frétt af mjög fjölmennum öðrum samsvarandi samkomum. Auðvitað er einhver hópur, einkum eldra fólks, sem ekki tekur þátt í göngu og útifundi þótt flestir geri það. Af þessu má augljóst vera þúsundir manna tóku þátt í hátíðahöldunum í gær. Ég var í Reykjanesbæ á fjölmennum fundi í Stapanum en af frásögnum manna að dæma um hátíðahöldin í Reykjavík og margmenninu í 1. maí kaffi verkalýðsfélaga og stjórnmálaflokka, var þátttaka miklu meiri en fjölmiðlar greina frá og segja myndir frá göngunni, útifundinum á Ingólfstorgi og í BSRB kaffinu sína sögu eins og sjá má...
1. Maí 2006

...Atvinnurekendur verða nú að endurskoða sína afstöðu og nálgun við samningsgerð. Þeir hafa litið á það sem sitt verkefni að standa gegn kröfum verkalýðshreyfingarinnar um kjarabætur. Því minni kjarabætur í samningum, þeim mun hróðugri eru þeir. En er þetta rétt afstaða? Hún er vissulega skiljanleg. Enhver mörk eru á því hvað fyrirtæki og stofnanir geta greitt starfsfólki í kaup. En á atvinnurekanda hvíla einnig aðrar kvaðir. Hann þarf að geta mannað sitt fley. Það er staðreynd að vandi hinna öldruðu á biðlistum eftir hjúkrunarrými er ekki einvörðungu sá að stjórnvöld hafi ekki svarað kalli um ný rými heldur er ekki hægt að manna það sem fyrir er. Aðstaðan nýtist ekki vegna manneklu. Talsvert hefur verið rætt um skort á hjúkrunarfræðingum á heilbrigðisstofnunum landsins. Minna hefur verið rætt um skort á sjúkraliðum og er hann þó enn meiri. ... Á þeim sem neitað hafa að semja um hærri kjör þessu fólki til handa hvílir ábyrgð. Undir henni hafa þeir ekki risið. Fyrst og fremst er það þó fjárveitingarvaldið sem hefur brugðist. Það hefur ekki sinnt skyldum atvinnurekandans, ekki gert öldrunarheimilum og hjúkrunarstofnunum kleift að manna sitt fley....
1. Maí 2006
Nú er hafinn bútasaumur á RÚV frumvarpinu, það sem þú kallar lýtaaðgerðir. Hvað segir það okkur? Það segir okkur að frumvarpið var stórgallað og að nauðsynlegt hafi verið að bæta það. En er ekki eitthvað meira sem þarf að skoða? Ég hefði haldið það. þessu frumvarpi er einfaldlega stórlega ábótavant og því ber að fresta afgreiðslu þess. Það besta sem sagt hefur verið um þetta frumvarp er frá Ólínu komið hér á heimasíðunni hjá þér, sérstaklega það sem hún hefur sagt um þá fjársjóði ...Atli Gíslason hefur líka gert þessu rækilega skil í þinginu...
Sunna Sara
1. Maí 2006

1. maí ávarp á samkomu Vinstri grænna í Kópavogi .
...Félagshyggja er í stöðugri þróun og Vinstri Græn eru kyndilberar nýrrar hugsunar og nýrrar bjartsýni. Auðvitað er hægt að gefast upp einsog Samfylking gerir og ganga út í sólarlagið arm í arm með Sjálfstæðisflokknum. Nútímalegt par við fyrstu sýn, en fyrst og fremst þreytulegt. Draumar lífs þeirra hafa lit sínum glatað. Sjálfstæðismenn og Samfylking eru komin á hugmyndafræðilegan eftirlaunaaldur og þurfa stöðuga þerapíu í nefndum, endurnýjunarhópum og ráðum til að peppa upp nýja og spennandi stefnu. Vinstri Græn þurfa þess ekki. Öllum er stefnan ljós. Öflug...
30. Apríl 2006
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra og nú einnig borgarforingi Framsóknar, fylgdist að eigin sögn með baráttufundi reykvísks launafólks í fyrra. Þótti honum æði fámennt á þessum baráttufundi - enda ekki nema von. Hann var, eða fylgdist með fundi á Lækjartorgi. Baráttufundurinn var hins vegar á Ingólfstorgi. Á þessu vakti ég athygli hér í lesendahorninu 6. maí á síðastliðnu ári, sbr. upplýsingar á...
Þjóðólfur
29. Apríl 2006
Haffi sem stundum er að skrifa inn á síðunni hjá þér er að undrast á ráðstefnunni sem Steingrímur J. vakti athygli á í Mogganum og velta fyrir sér liðinu sem þar á að safna saman undir merkjum stóriðjustefnunnar og útsölu á orkunni og náttúrunni. Mér finnst þetta nú allt saman frekar einfalt. Liðið sem hefur bullandi efasemdir um það að við Íslendingar getum yfir leitt klárað okkur sjálfir og rekið hér okkar eigið og gott samfélag leggst alltaf flatt ef einhverjir útlendingar sýna okkur áhuga. Nú finnst mönnum svo merkilegt að Economist skuli hafa uppgötvað Ísland að ólíklegasta fólk leggur nafn sitt við svona útsölu kynningu á landinu og náttúrunni... Það er aldeilis kostaboð að fá að koma og hlusta á Halldór, Árna fjármálaráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu tala undir þessum formerkjum, í einn dag, fyrir 160 þúsund eða meira. Eru það ekki eins og hálfs mánaðar laun hjá starfsfólki á elliheimilunum? Í hvaða heimi lifir þetta fólk? Heldur það að ...
S. Pálsson
29. Apríl 2006
Hernaðarþjónkun íslenskra valdhafa við Pentagon er skrýtið þrotabú. Á Vallarsvæðinu verður brátt mannauðn í bandarískri íbúðabyggð sem telur 900 þokkalegar fjölskylduíbúðir, skóla, verslanir, kirkju m.m. Sagt er að þorp þetta sé virði 30 milljarða en allt er óráðið með framtíð þess. Sama gildir um hernaðarmannvirki, flugvöll, flugturn og fleira góss. Allt er það í eignarhaldsuppnámi þótt íslensk stjórnvöld tali þegar um það sem íslenskar ríkiseignir. Helst er spáð í að ...Ríkisstjórn Íslands og utanríkisráðherra eru öllu trausti rúin meðal eigin landsmanna. Hnípnir bíða þeir aðilar eftir fyrirmælum Pentagons og einhliða geðþóttaákvörðunum um grundvöll utanríkisstefnu Íslands. Sjálfsmatið er nú á núlli, niðurlægingin alger...
29. Apríl 2006
...Það sem mér blöskrar einna mest, er að ALCOA skuli voga sér þá bíræfni að bjóða “the Economist” með óþjóðlegan áróður sinn til Íslands, til að narra fleiri sér líka til föðurlands vors. Hafa þeir hreinlega tekið Ísland eignarnámi og farnir að stjórna beint, sem sé ekki í gegnum “Sjálfstæðisflokkinn” og “Framsóknarflokkinn”? Eða eru nornir og spunakarlar hér að verki?
Ég vona að...
Úlfljótur
29. Apríl 2006
Ríkisstjórnin hefur nú kastað stríðshanskanum. Það gerði hún þegar hún ákvað að rífa frumvarpið um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins út úr menntamálanefnd Alþingis og henda því inn í þriðju og jafnframt lokaumræðu á Alþingi. Þetta er frumvarpið sem stjórnarandstaðan sameinuð hafði óskað eftir að sett yrði á ís. Sú ósk hefur verið hundsuð...Breytingarnar sem nú eru boðaðar á RÚV frumvarpinu eru að sjálfsögðu til góðs. Þær eru hins vegar ekkert annað en bútasaumur til þess að reyna að kaupa stuðning við þetta vonlausa frumvarp. Engum hef ég heyrt í sem telur þetta nóg til að snúa andstöðu við frumvarpið upp í stuðning. Það gera sér allir grein fyrir því að...
28. Apríl 2006

Í Morgunblaðinu í dag gerir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, að umtalsefni ráðstefnu breska vikuritsins "The Economist", sem verður á Hótel Nordica 15. maí í boði Alcoa og fleiri aðila. Gerir hann að sérstöku umfjöllunarefni kynningarbækling ráðstefnunnar. Þennan kynningarbækling er ekki hægt að nálgast á heimasíðu ráðstefnunnar en ég geri hann aðgengilegan hér á heimasíðu minni. Í grein sinni segir Steingrímur m.a. :
"Nú er það ekki svo að maður kippi sér upp við ráðstefnuboð og ekki heldur þó ræðumannahjörðin sé einlit og útlit fyrir að fátt annað komist að en níðþröng sjónarmið ráðstefnuhaldarans eða þess sem borgar brúsann. Svo er vissulega í þessu tilfelli. Ekkert nema "stofuhreinir" stuðningsmenn Kárahnjúkavirkjunar komast á pall ..." Ég læt ...
28. Apríl 2006
Ég á vægast sagt engin orð yfir ósvífni Alcoa og íslenskra stuðnigsfyrirtækja að bjóða Economist til að efna hér til frjálshyggjuhátíðar til að fagna einkavæðingu undangenginna ára og örva fjölþjóðlega auðhringa til að sækja í orku okkar landsmanna á komandi árum fyrir eiturspúandi stóriðjuver sín. Steingrímur J. Sigfússon reifar þetta ágætlega í Morgunblaðsgrein sinni í dag sem þú einnig birtir hér á síðunni. Hann talar þar um að ekkert nema "stofuhreinir stuðningsmenn Kárahnjúkavirkjunar" komist á umræðupall á þessari makalausu ráðstefnu sem kostar vel á annað hundrað þúsund krónur að sækja. En hverjir skyldu vera hinir stofuhreinu? Ég sé í bæklingnum, sem þú gefur slóðina fyrir, að...
Haffi
27. Apríl 2006

Einar Kárason rithöfundur skrifar oft lipran texta. Ekki er þar með sagt að alltaf sé mikið vit í honum. Í grein í Morgunblaðinu í dag reynir Einar að svara sjálfum sér þeirri spurningu af hverju
Íhaldið óttist bara Samfylkinguna. Einar Kárason kemst að þeirri niðurstöðu að Samfylkingin sé alvöru flokkur sem Sjálfstæðismenn geri sér grein fyrir að keppi við hann um völdin í landinu. VG sé skýr kostur sem Sjálfstæðisflokkurinn viti hvar hann hafi, hann kunni að berjast við hann og líki það ekki illa. Öðru máli gegni um Samylkinguna...
Nokkur sannleikskorn kann að vera að finna í þessari greiningu. Samfylkingin vill vera keppinautur Sjálfstæðisflokksins um völdin en er það síður um stefnumörkun í þjóðfélaginu. Þar er VG keppinauturinn...Sem betur fer er þessi staða ekki uppi hjá umhverfissinnum og félagslega þenkjandi fólki hér á landi. Þeir þurfa ekki að velja á milli Íhalds og Samfylkingar. Þeir hafa Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Þeim flokki er treystandi til að koma stefnumálum sínum í mark þegar hann kemst til áhrifa fremur en flokki sem vill verða spegilmynd Íhaldsins...
26. Apríl 2006
Engin fjölmiðlalög nema sátt verði milli flokkanna. Þetta er haft eftir þingmönnum Framsóknarflokksins í fjölmiðlum í dag. Þingmennirnir eru mjög samhljóma í yfirlýsingum sínum hvað þetta snertir. Magnús Stefánsson starfandi þingflokksformaður talar skýrt á forsíðu Fréttablaðsins: þetta frumvarp verður ekki að lögum nema pólitísk samstaða sé um málið. Sú þverpólitíska samstaða þarf að ná alveg í gegn. Málið verður ekki klárað öðruvísi í vor." Og Ísólfur Gylfi Pálmason tekur í sama streng: " Við þurfum að velta þessum hlutum fyrir okkur eins vel og mögulegt er og alls ekki ana að neinu." Gott og vel. Ég er fyrir mitt leyti sammála því að um fjölmiðlalög þurfi að ríkja breið samstaða. En gildir hið sama ekki um Ríkisútvarpið? Þarf ekki að...
25. Apríl 2006
...Ekki tekst betur til en svo að hugmyndasmiðirnir skila til kjósenda berrössuðum flokki, hugsjónalausum og klyfjuðum sviknum loforðum. Þetta gera þeir m.a. með endurvinnslu á gömlum og innantómum slagorðum. Þá skreyta þeir plaggið með stolnum fjöðrum úr smiðjum annarra framboða, stundum bregða þeir einfaldlega á leik sér og öðrum, nema þá kannski einhverjum framsóknarmönnum, til nokkurrar skemmtunar. Og þegar allt um þrýtur gefa þeir loforð um merkilegar framkvæmdir en sem þegar eru orðnar að veruleika. Hér á eftir verður stiklað á stóru til frekari kynningar á stefnuskránni og ofangreindum niðurstöðum til stuðnings...Loks vil ég drepa á tvö atriði sem ég veit ekki fyrir víst hvort ímyndarhönnuðir auglýsingastofunnar gerðu sér til skemmtunar, eða af vanþekkingu einni saman, að setja inn í stefnuskrána svokölluðu loforð um málefni sem þegar hefur verið unnið dyggilega að á vegum borgaryfirvalda og þarfnast engrar sérstakrar endurvinnslu. Þannig boðar Framsóknarflokkurinn nú “sjóminjasafn á Grandagarði”, safn sem var formlega opnað með pompi og prakt fyrir ári síðan, einmitt á þeim stað sem Framsóknarframboðið telur ákjósanlegan. Þeim mun meira kemur þetta á óvart þar sem forstöðumaður Sjóminjasafnsins heitir...
Þjóðólfur
24. Apríl 2006
...Þetta gerist með því að RÚV verður skipt í almannaþjónustufyrirtæki og samkeppnisrekstur með fullri aðgreiningu. Undir samkeppnishattinum getur RÚV, eða útvarpsstjóri, ákveðið að stofna fyrirtæki með öðrum, og nú skal ég taka fyrir þig dæmi: Morgunblaðið, Síminn og Páll Magnússon ákveða að koma á fót framleiðslufyrirtæki sem hefur að markmiði að framleiða íslenskan spennuþátt í tíu þáttum. Morgunblaðið leggur fram 100 milljónir króna í fyrirtækið, Síminn 100 milljónir og Páll Magnússon leggur til aðstöðu, tæki og “know how” sjónvarpsins fyrir 100 milljónir króna. Fyrirtækið Mosírúv framleiðir svo þessa tíu þætti sem fjármagnaðir eru af KB banka. En þá þarf að fá einhevrn til að kaupa þættina og greiða bæði hagnað og fjármagnskostnað! 365 miðlarnir hafa ekki áhuga og þættirnir seljast ekki fyrsta kastið á erlendum vettvangi. Kemur þá ekki sjónvarpið sterkt inn. Páll Magnússon ákveður að kaupa þættina tíu af Mosírúv fyrir hluta af nefskattinum sem öllum er gert að ...
Ólína
23. Apríl 2006
RÚV-frumvarpið er dæmigerð framsóknarhraksmán, flutt af íhaldinu og er ekkert nema skref á einkavæðingarleiðinni. Ég er satt að segja alveg gáttaður á Framsókn að láta draga sig á þessum asnaeyrum, og tvennar kosningar í uppsiglingu. Það er eins og flokkurinn sé haldinn sjálfseyðingahvöt þessi árin. Fyrir utan háeffið í RÚV frumvarpinu er nefskatturinn tóm endaleysa eins og ríkisskattstjóri hefur bent á. RÚV er prinsipp, mannréttindamál jafn sjálfsagt að hafa aðgang að og að vatninu. Við borgum fyrir vatnið í gegnum...
hágé
23. Apríl 2006
"Svo virðist sem stjórnmálamenn haldi aldrei á lofti orðinu sátt nema ósátt ríki." Svo mæltist Staksteinari Morgunblaðsins 19. apríl síðastliðinn þegar hótun Framsóknarflokksins um að múra upp í Skerjafjörðinn var til umræðu. Sem kunnugt er vill exbé í Reykjavík flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni og út á Löngusker í Skerjafirði og talar um að mynduð verði um þetta þjóðarsátt. Og Staksteinar varpaði fram spurningu:
"Hvernig getur líka orðið sátt um flugvöll á Lönguskerjum þegar Skerjafjörðurinn er löngu orðinn helsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins með sínu fjölbreytta lífríki. Eru landfyllingar, flugvallargerð og flugumferð á slíkum stað líkleg til að skapa þjóðarsátt? Að ekki sé talað um kostnaðinn, sem rennur úr götóttum vasa skattgreiðenda." Auðvitað er það sjónarmið að vilja setja flugvöll í Skerjafjörðinn og þess vegna ekkert að því að berjast fyrir því að svo verði gert. Ég leyfi mér hins vegar að fullyrða - og tek þar undir með Staksteinari - að um slíkt mun aldrei takast þjóðarsátt...
23. Apríl 2006
Birtist í Blaðinu 22.04.06.
... Er það inn í þennan heim sem Ríkisútvarpinu er stefnt? Ef ekki, þá vil ég fá að vita hvað það er sem Ríkisútvarpið getur ekki gert undir núverandi löggjöf en þarf nú bráðnauðsynlega að fá svigrúm til að gera? Er nálægðin við hið pólitíska vald vandamálið? Varla, því með núverandi löggjöf er á mótsagnakenndan hátt gert tvennt í senn, útvarpsstjóra veitt alræðisvald um mannaráðningar og framkvæmd dagskrár og hert á hinum pólitísku tengslum. Og ef pólitísku tengslin vefajst fyrir mönnum, hvers vegna ekki draga úr þeim? Ef Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Árni Matthiesen, fjármálaráherra, eru vandamálið, að eigin mati, hvers vegna halda þau sig þá ekki til hlés...?
22. Apríl 2006
...Fulltrúi Microsoft á Íslandi hefur sent fyrirtækjum landsins bréf og að sögn hótað þeim með heimsókn í lögreglufylgd til að ganga úr skugga um að þau séu með „löglegan hugbúnað”. Löglegur hugbúnaður þýðir að sjálfsögðu Windows, sem keypt er fyrir fáránlegt verð. Sannleikurinn er sá að það er enginn þörf fyrir Windows á tölvur. Til er ókeypis hugbúnaður, eða hundódýr, sem annað hvort er hægt að sækja á netið eða panta fyrir sáralítið frá framleiðanda. Hér er átt við LINUX, sem er til í mörgum útgáfum, en á það sameiginlegt að vera þróaður af samfélagi fólks um víða veröld sem hafnar rétti „vinar Kína” til að drottna yfir markaðnum. Þannig hefur á undanförnum árum orðið til svokallaður „opinn hugbúnaður” sem öllum leyfist að afrita og...
21. Apríl 2006
Listi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík er firnasterkur. Svandís Svavarsdóttir hefur sannað sig sem mjög öflugur stjórnmálamaður, sem þegar hefur skipað sér í fremstu röð stjórnmálamanna í landinu. Í öðru sæti listans er Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, sem gegnt hefur lykilstöðum hjá Reykjavíkurborg, þar á meðal verið forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. Ég verð að viðurkenna að mér hefur verið órótt að fylgjast með skoðanakönnunum að undanförnu, sem allt of margar hafa gefið vísbendingu um að VG fengi aðeins einn borgarfulltrúa kjörinn, og væri Árni Þór þar með dottinn út úr borgarstjórn. Þetta væri mikið slys. Árni Þór Sigurðsson er með allra reynslumestu mönnum í málefnum borgar- og landsmála og þarf ekki að hafa mörg orð um það hve slæmt það væri að hann fengi ekki kosningu. Þetta skyldu vinstri menn og umhverfissinnar hafa í huga. Reyndar þyrftum við að gera enn betur og tryggja Þorleifi Gunnlaugssyni, dúklagningameistara, einnig aðkomu að borgarstjórninni í komandi kosningum. Þorleifur er geysilega öflugur maður, það þekki ég vel. Hann er beintengdur inn í atvinnulífið, hefur tekið þátt í mannréttindabaráttu og verið potturinn og pannan í skipulagningu hvers kyns funda og herferða svo lengi sem ég man eftir. Hann er hins vegar einn af þeim mönnum sem...
21. Apríl 2006
Birtist í Fréttablaðinu 20.04.06.
...Stjórnendahyggja af þessu tagi virðist hins vegar eiga nokkuð upp á pallborðið um þessar mundir: Ofurtrú á hinum sterka stjórnanda sem skákar liðsmönnum sínum til í anda skilvirkni og hagkvæmni. Ég hef meiri trú á einstaklingnum en svo að ég sé tilbúinn að gleypa slíka hugmyndafræði. Hefur mér enda sýnst kraftmestu stofnanirnar og fyrirtækin vera þau sem virkja sköpunarkraft hvers og eins en leggja ekki allt traust sitt á hinn alvitra ofurlaunaforstjóra. Þá vil ég minna á að um árabil hefur Ríkisútvarpið verið fjárhagslega svelt og er þar komin helsta skýringin á vandræðum stofnunarinnar...
20. Apríl 2006
Málefni framboðanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor læðast fram í dagsljósið hvert á fætur öðrum. Allir vilja bæta hag aldraðra, styrkja og efla skólana, jafnvel vinna að gjaldfrjálsum leikskóla og jafna aðgengi barna í borginni að íþrótta- og listnámi.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð virðist ætla að marka sér skýrari sérstöðu en nokkurn óraði fyrir. Þessa sérstöðu má sjá í eftirtöldum atriðum...Hér eru einungis talin til þau atriði sem virðast greina okkar framboð frá framboði hinna sem fram eru komin. Það verður sífellt skýrara að Vinstri græn bjóða upp á hreinar línur um allt land og ekki síst í Reykjavík í vor...
20. Apríl 2006
Undir forystu forsætisráðherra Framsóknarflokksins er boðuð einkavæðing á öllum sviðum. Ekki er því úr vegi að spyrja: Hversu langt er ríkisstjórnin tilbúin að ganga? Búið er að markaðsvæða bankana, fjarskiptin, póstþjónustuna, raforkufyrirtækin svo fátt eitt sé nefnt, og stefnt að því að auka enn á einkavæðinguna. Stjórnin vill halda áfram og markaðsvæða Landsvirkjun, Ríkisútvarpið og ÁTVR. Við þetta er að bæta að...Nú liggur til að mynda fyrir að stórlega skortir á umræðu um efnahagsmál og þann veruleika sem blasir við að verðbólgan er komin af stað, skuldir heimilanna aukast og efnahagskerfið veikist. En í stað þess að...
Hjálmar frá Hóli
20. Apríl 2006
Birtist í Morgunblaðinu 19.04.06.
...Í öðru lagi er Ríkisútvarpið svokölluð B-hlutastofnun og sem slík mjög sjálfráð um allar sínar gjörðir. Þegar Rás 2 var sett á laggirnar á sínum tíma gerðist það með þeim hætti að Andrés Björnsson, þáverandi útvarpsstjóri, skipaði þriggja manna nefnd til að skoða kosti í stöðunni og í kjölfarið undirbúa stofnun rásarinnar. Skömmu síðar var opnað fyrir Rás 2! Varla getur þetta talist þunglamalegt kerfi. Ég hef einnig velt því fyrir mér hvort Ríkisútvarpið og stjórnendur þess, hafi verið látnir njóta sannmælis í oft óvæginni gagnrýni í þeirra garð á undanförnum árum. Þar vísa ég í framfarir ...
19. Apríl 2006
Birtist í Morgunblaðinu 18.04.06.
...Aðeins þegar verðmæti dýrmætrar fiðlu kemur til álita má kenna lífsmark með forsvarsmönnum ...Skyldi það ekki verða þeim umhugsunarefni nú, að þeir alþingismenn sem mest hafa talað fyrir frumvarpi menntamálaráðherra eru sömu þingmennirnir og sjálfir hafa lagt fram lagafrumvarp um að leggja Ríkisútvarpið niður! Formaður menntamálanefndar Alþingis, Sigurður Kári Kristjánsson, sá hinn sami og hefur fengið það verkefni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að sannfæra þing og þjóð um að hagur Ríkisútvarpsins verði tryggður, hefur sjálfur, og það meira að segja nýlega, talað fyrir því að Ríkisútvarpið verði gert að hlutafélagi og það síðan selt. Er þetta traustvekjandi? Svari hver fyrir sig...
19. Apríl 2006
...Alla vega vottar ekki fyrir trúverðugleika hjá Framsókn í þessu efni eftir að hún lak niður í RÚV-málinu og nú síðast gagnvart Íbúðalánasjóði. En þótt Framsókn og Íhald séu runnin saman í eitt er ekki þar með sagt að Ríkisstjórnarflokkurinn sé samstiga. Þar er hver höndin upp á móti annarri og ræður yfirformaðurinn, Halldór Ásgrímsson, ekki við neitt á sama tíma og undirformaðurinn, Geir H. Haarde, er alltaf í útlöndum og því fjarri góðu gamni. Á meðan logar þjóðarskútan stafna á milli. Slæmt að...
Haffi
18. Apríl 2006
...Það er alls óeðlilegt að fulltrúar tveggja púkaflokka sem rétt mörðu meirihluta í síðustu alþingiskosningum, og samkvæmt skoðanakönnunum eru nú sennilega í minnihluta, þar sem annar þeirra er líklegast horfin af sjónarsviðinu sem stjórnmálaflokkur, skuli voga sér að ræna eignum þjóðarinnar í þágu einkavæðingarinnar. Og ekki nóg með það því nú stendur til að láta greipar sópa um Ríkisútvarpið og þá ómetanlegu menningarsjóði sem þar eru. Slíkt væri meira en furðulegt, það væri svívirðilegt! Ég er einnig sammála Ólínu um að það sé í meira lagi slappt, svo ekki sé dýpra tekið til orða, að “stjórnarandstaðan”, þar með verkalýðshreyfingin, menningafrömuðir og aðrir góðir Íslendingar, skuli hreinlega láta þetta landráð viðgangast! Núverandi stjórnvöld hafa fyrir löngu...
Úlfljótur
17. Apríl 2006

Batnandi fólki er best að lifa. Þess vegna hljótum við að taka fagnandi yfirlýsingum formanns Samfylkingarinnar, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, í fréttum um helgina, um úrræði í efnahagsmálum. Ég fæ ekki betur séð en þær feli í sér kúvendingu á stefnu Samfylkingarinnar í veigamiklum atriðum.
Í fyrsta lagi tekur formaður Samfylkingarinnar undir kröfu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs til langs tíma, um stóriðjustopp á næstu árum. Þetta er fráhvarf frá fyrri yfirlýsingum, þótt það verði að viðurkennast að erfitt er að átta sig á því hver raunveruleg stefna Samfylkingarinnar er í þessum efnum því eitt virðist vera sagt á Austfjörðum og á Húsavík, annað á Sauðárkróki og svo enn annað í Hafnarfirði og Reykjanesbæ. Á Alþingi hefur yfirleitt verið talað fremur óskýrt um þessi efni...Formaður Samfylkingarinnar sagði í ræðu á nýafstöðnum flokkstjórnarfundi að Samfylkingin væri ekki, og vildi ekki vera, "jaðarflokkur" heldur stór og breiður flokkur.
Það skyldi þó aldrei vera að sá flokkur sem hér var augljóslega skírskotað til sem jaðarflokks, Vinstrihreyfingin grænt framboð, hafi verið sá flokkur sem mestan hljómgrunn hefur átt með þjóðinni í þessum efnum á undanförnum misserum? Gæti verið, að hvað stóriðjustefnuna snertir, sé Samfylkingin nú, þegar allt kemur til alls, að skríða utan af jaðrinum og samræma sjónarmið sín meirihlutaviljanum í landinu...17. Apríl 2006
Til hamingju með afmæli síðunnar. Höfum oft undrast það hjónin hve mjög þú leggur þig fram um að halda sambandi við umheiminn í skrifuðu máli. Þakka þér fyrir áminninguna um ríkisútvarpið sem þú birtir af gefnu tilefni. Menning er nefnilega merkileg skepna. Einn daginn áþreifanleg og lifandi í annan tíma fer hún með löndum. Dúkkar svo allt í einu upp og glóir sem gull. Mér kom í hug menningin Ögmundur á dögunum þegar ég heyrði viðtal við Erling Blöndal Bengtsson, cellóleikarann dáða. Hann var að segja frá uppvexti sínum og æsku, tengslunum við Ísland, og heimsóknina til landsins þegar hann var fjórtán ára og hélt tónleika í Gamla bíói. Svala Nielsen, frænka hans, sagði líka frá heimsókn hans til landsins strax að styrjöldinni lokinni, og Erling sagði frá hvernig Ragnar í Smára og tveir aðrir ... En er þetta ekki einnmitt gull Ögmundur? Ekki leikfang heldur gersemi? Þúsund svona molar, þúsund brot af menningu þjóðar eru geymd í ósýnilegum sjóðum ríkisútvarpsins. Þúsund brot sem geta hvenær sem er...Menningin getur verið sögulaus eins og þjóð. Hún getur verið minnislaus eins og skáld, ráðherrar eða fyrrverandi ráðherra. Hvar eru nú allir þeir sem ættu að gera sér grein fyrir hrákasmíðinni sem er á frumvarpinu sem sagt er að sé frumvarp menntamálaráðherra? Er hugmyndin til dæmis sú að Páll Magnússon geti einn ráðstafað þeim eignum sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni...?
Ólína
16. Apríl 2006
...bin Laden belongs – all, all belong. Gays, lesbians and so called straigths, all are loved, all are precious... Allir eiga samleið. Allir. Bush og bin Laden, samkynhneigðir og gagnkynhneigðir. Þetta er ein fjölskylda og í þessari fjölsyldu eiga að gilda lögmál fjölskyldunnar, þar sem hver leggur fram eftir getu og hver fær eftir þörfum. Það er suður-afríski biskupinn Desmond Tutu sem talar á heimsþingi Alkirkjuráðsins í Brasilíu í febrúar sl.. Á þessa leið skilaði Ævar Kjaratansson boðskap Tutus til íslenskra útvarpshlustenda. Á páskum og öðrum stórhátíðum sýnir Ríkisútvarpið gjarnan hvers það er megnugt. Ég stilli yfirleitt á...
16. Apríl 2006
Valgerður Sverrisdóttir kom fram í fréttum í kvöld. Maður hreinlega frýs þegar hún hefur upp raust sína. Hún sagði þrennt sem olli mér ónotum. Í fyrsta lagi staðfesti hún uppgjöf Framsóknar varðandi Íbúðalánasjóð. Nú yrði að horfa til framtíðar, hét það á hennar tungumáli þegar hún réttlætti að bönkunum yrði afhentur sjóðurinn. Í öðru lagi sagði hún að það væri efnahagslífinu mikilvægt að halda stóriðjustefnunni til streitu. Um þetta þarf ekki að hafa mörg orð. Í þriðja lagi sagði hún, að ef "fyrirtækin" vildu athafna sig frekar hér á landi þá væri það hið besta mál. Með öðrum orðum, ef Alcan, Alcoa og hvað þau öll heita, vilja áfram fá náttúruperlurnar ókeypis, rafmagn á útsöluprís og skattafríðindin, þá eru þessir fjölþjóðahringar velkomnir! Ég á bara til eitt að segja...
Haffi
15. Apríl 2006
Ég var að lesa pistil þinn með fyrirsögninni “ÞINGMENN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í HUGSJÓNAHAM” og ég er fullkomlega sammála viðhorfi þínu...Ég skil ekki hvað þeir telja kostinn með þingskjali sínu númer 1056, og óréttlætinu og áhyggjunum sem þeir vilja í garð starfsfólks...helst get ég ímyndað mér að þetta fólk viti ekki betur, og viti ekki hvað það eigi að gera við tímann! Heilbrigðast væri að það fengi sér störf, til dæmis á sjónum eða í frystihúsi, þar sem það gæti haft hugann við þörf störf og skilað einhverju til samfélagsins...
Úlfljótur
14. Apríl 2006
...Framboð Framsóknarflokksins í Reykjavík undir nýju vörumerki - exbé - á eftir að skila sér á kjördag. Sérstaklega mun ungt fólk kunna að meta svona „fansí" nafn. Tala nú ekki um ef framsóknarmenn láta áfengi og pizzu fylgja með vörunni. Nútímalegt og skilvirkt framsóknarlýðræði. Framboð framsóknarmanna í Reykjavík undir merkinu exbé nefnir í milljónaauglýsingum sínum hvorki Framsóknarflokkinn né lætur sjást í formanninn, Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Sú staða er komin upp að það er lífsspursmál að kannast við hvorugan. Oddviti framsóknarmanna ætti...
Hjörtur Hjartarson
14. Apríl 2006
"Hvað er á bak við hina bandarísku hersetu í Keflavík undanfarna áratugi, hvað er á bak við herþotur og herþyrlur, kafbáta og herskip, hvað er á bak við einkennisbúninga og heiðursmerki, kaskeiti og radarstöðvar? Hvaða hugarfar og heimsmynd er það sem við Íslendingar erum að kveðja – sumir með söknuði, aðrir fagnandi – þegar þoturnar fjórar hverfa í átt til hnígandi sólar?" Þannig spyr séra
Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós ... Í predikun sinni veltir hann síðan vöngum yfir þessari spurningu og öðrum áleitnum spurningum okkar samtíðar, setur þær í sögulegt, pólitískt og heimspekilegt samhengi, auk hins trúarlega. Presti sem predikar í nafni Þjóðkirkju er mikill vandi á höndum. Hann þarf að geta talað til hins trúaða manns en einnig til hins sem ekki er trúaður eða hefur efasemdir í brjósti. Séra
Gunnar Kristjánsson rís undir þessu erfiða hlutverki...
Séra
Gunnar Kristjánsson var í hópi guðfræðinga sem höfðu sig mjög í frammi í friðarbaráttunni í byrjun níunda áratugar síðustu aldar. Hann var einn af gerendunum í sköpun nýrra tíma. Þá, sem nú...
13. Apríl 2006
...Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, sagði einnig í fréttum í kvöld að þessi hækkun skipti fyrst og fremst máli í þeim byggðarlögum þar sem bankarnir væru tregir að lána fé til íbúðakaupa, væntanlega vegna þess að veð væru þar ótrygg. Sagði fjármálaráðherra að vart væri á þau byggðarlög leggjandi að meina fólki þar um lánsfjármagn til íbúðakaupa. Undir þetta skal heilshugar tekið. Skyldi þetta vera vísbending um að fjármálaráðherra ætli ekki að láta undan þrýstingi frá bönkum og fjármálafyrirtækjum um að leggja Íbúðalánasjóð niður eða nokkuð sem ekki er betra að gera hann að svokölluðum heildsölubanka, sem fjármálastofnanir geta síðan makað krókinn á? Ef slíkt væri uppi á teningnum væri það endanleg sönnun þess að ríkisstjórnin horfði fyrst til hagsmuna fjármálafyrirtækja og síðan til hagsmuna almennings.
Úrtöluhagfræðingarnir, sem nú streyma fram á sjónvarpsskjáinn, eftir að skýrt var frá hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs verða að svara því hvort ...
12. Apríl 2006
Það fréttabréf sem þið hafið nú fyrir framan ykkur er það hundraðasta í röðinni. Það hefur verið sent reglulega út allt frá því að ég stofnaði vefsíðu mína ogmundur.is og við lauslega athugun kemur í ljós að í fréttabréfinu hafa birst á níunda hundrað greinar eftir mig, um 150 greinar eftir aðra höfunda og hátt í 600 lesendabréf. Með því að skrá sig á póstlistann hér til vinstri er hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfinu.
12. Apríl 2006

...Því miður fæ ég ekki betur séð en hinn nýi framkvæmdastjóri hafi orðið vanahugsun Samtaka atvinnulífsins að bráð. Sýn SA á heiminn hefur um áratugaskeið verið undirorpinn rótgróinni vanahugsun: Allt illt er hinu opinbera að kenna og allt sem úrskeiðis fer á vinnumarkaði tengist á einhvern hátt opinberum starfsmönnum. Fyrir fáeinum dögum hóf Vilhjálmur upp raust sína og talaði um
“stórútgáfu sveitarfélaganna á innistæðulausum launaávísunum”. Þar átti Vilhjálmur við launahækkun til handa lægst launaða fólkinu. Undir þetta tekur síðan aðstoðarframkvæmdastjóri SA, Hannes G. Sigurðsson, í dag og grætur það ranglæti að láglaunafólki á hjúkrunarstofnunum skuli nú vera nóg boðið...Ég veit að hinn nýi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er réttsýnn maður. Ég er hins vegar hræddur um að hann komist ekki langt með réttlætið fjötraður í vanahugsun samtaka sinna. Upp úr hjólförunum Vilhjálmur! Beittu þér fyrir því að samtök atvinnurekenda láti af leiðigjörnu sífri sínu og...
11. Apríl 2006
Um helgina hélt formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, eina af sínum mörgu tímamótaræðum. Þetta gerðist á flokksstjórnarfundi sem reyndar var ekki haldinn í Borgarnesi að þessu sinni heldur á Hótel Nordica í Reykjavík. Í þessari ræðu kom enn og aftur í ljós að vegir Samfylkingarinnar eru óútreiknanlegir. Ingibjörg Sólrún fór um víðan völl og lagði að sjálfsögðu nútímalega vinkla á alla helstu málaflokka þannig að áherslurnar komu oftar en ekki óþægilega á óvart. Meðal annars kvartaði hún sáran undan því, fyrir sína hönd og gamla hippagengisins í Samfylkingunni, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði brugðist í varnarmálum þjóðarinnar....Hitt er aftur á móti ekkert gleðiefni að þurfa að horfa nú upp á þetta fyrrum göngufólk friðar og réttlætis svo fullkomlega berrassað hugmyndafræðilega - í hverju málinu á fætur öðru - að naumast hefur annað eins sést í íslenskri stjórnmálasögu. Og það má þó keisarinn nakti eiga, Sjálfstæðisflokkurinn, sem Ingibjörg Sólrún beinir spjótum sínum að, að hann reynir í það minnsta að hylja viðkvæmustu staðina, jafnt að...
Þjóðólfur
11. Apríl 2006
Engin gæði jarðarinnar eru óendanleg. Það á við um olíu eins og annað. Samkvæmt lógískri hugsun kemur því að því einn góðan veðurdag að olían blessuð, sem dælt er dag og nótt úr borholum víðsvegar í heiminum, verður til þurrðar gengin. Þegar maður hefur gert sér grein fyrir þessu verður auðveldara að skilja hugtakið “Peak Oil”. Þetta hugtak á rætur í kenningu sem tvímælalaust er rétt að gefa gaum að, ætli menn ekki að fljóta sofandi að feigðarósi...
11. Apríl 2006
Yfirleitt hrífst ég af hugsjónafólki. Að sjálfsögðu er hrifningin þó háð því hver hugsjónin er. Það verður að játast að hugsjón þeirra Bjarna Benediktssonar, Birgis Ármannssonar, Drífu Hjartardóttur, Guðjóns Hjörleifssonar, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, Gunnars Örlygssonar, Péturs H. Blöndals og Sigurðar Kára Kristjánssonar eins og hún birtist í þingskjali nr. 1056, er ekki sérlega hrífandi...Sennilega gefa sjálfstæðisþingmennirnir átta lítið fyrir röksemdir frá samtökum launafólks. Í sjálfu sér er ekki hægt að gagnrýna þá fyrir að beita sér í málum sem þeim finnst vera brennandi réttlætismál. Þó verð ég að segja að glæsilegri hugsjónum hef ég kynnst um dagana en þeirri að vilja auðvelda forstjóra að reka starfsmann skýringarlaust...
9. Apríl 2006

Athygli vakti við umræðu um utanríkismál á Alþingi í vikunni hve mjög Geir H. Haarde endurómaði áherslur bandarískrar utanríkisstefnu í ræðu sinni. Þannig réðst hann á Íran og lagði lykkju á leið sína til þess að gagnrýna nýkjörna stjórn í Palestínu... Að þessu leyti er líkt komið á með Hamas og stjórnvöldum í Ísrael því hin síðarnefndu hafa ekki viljað viðurkenna tilvist Palestínu, eins og hún var ákveðin á vettvangi Sameinuðu þjóðanna eftir hin blóðugu átök á árunum 1948 – 49. Þar var ákveðið að Palestínumenn fengju rúman fimmtung af Palestínu eða um 22%. Núverandi stjórn í Ísrael ætlar Palestínumönnum innan við 10% af sundurtættri Palestínu. Myndirnar hér að ofan sýna þessa þróun. Lengst til vinstri er Palestína árið 1945 þegar gyðingar hafa verið að koma sér fyrir á svokölluðum landnemabyggðum. Síðan eru landamærin 1947 og þá samkvæmt grænu línu Sameinuðu þjóðanna 1949 eftir stríðsátökin. Þá eru landamærin eftir Sex daga stríðið 1967 og loks eins og staðan hefur verið síðan 2000. Hvað eftir annað hafa Sameinuðu þjóðirniar ályktað en þegar komið hefur til kasta Öryggisráðsins hafa Bandaríkjamenn jafnan beitt neitunarvaldi...
9. Apríl 2006
Þakka þér fyrir að vekja athygli á grein Páls Magnússonar, útvarpsstjóra. Hana þyrftu fleiri að sjá en þeir sem lesa Morgunblaðið. Hann ræðst þar með óvenjulegum hætti að Þorsteini Pálssyni, ritstjóra Fréttablaðsins, með skítkasti og klámhöggum, sem að réttu ættu að verða enn ein ástæðan til þess að drengurinn sá kæmi ekki til greina sem stjórnandi ríkisútvarpsins. Skítkastið á Þorstein Pálsson er afhjúpandi fyrir ...Merkilegt að yfirmenn NFS, Stöðvar 2, DV og Fréttablaðsins skuli ekki þegar hafa látið heyra frá sér. Orðhvatur gamall félagi útvarpsstjóra sem nú ritstýrir DV gæti til dæmis látið heyra frá sér. Prinsippmálin eru honum hjartfólgin hefur mátt skilja á leiðurum hans. Fréttamönnum og starfsmönnum ríkisútvarpsins hlýtur líka að vera brugðið. Eða eru menn sáttir við trakteringarnar? Eða líta menn kannski á grein útvarpsstjóra sem vísbendingu um að hann hafi sjálfur gengið erinda þeirra mörgu eigenda sem hann hefur þjónað undir? Í ljósi digurbarkalegra yfirlýsinga útvarpsstjóra um annan ritstjóra Fréttablaðsins sem til dæmis almennir sjálfstæðismenn vita að má ekki vamm sitt vita hlýtur...
Stefán
8. Apríl 2006

Í gær fjallaði ég um helstu samstarfsmenn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, um breytingar á lögum um útvarpsrekstur í landinu. Þetta er frjálshyggjuvængur Sjálfstæðisflokksins ... Þessir samstarfsmenn menntamálaráðherra styðja frumvarp hennar þótt þeir vilji reyndar ganga skrefi lengra en ráðherra, láta ekki staðar numið við hlutafélagavæðingu heldur selja Ríkisútvarpið hið allra fyrsta. Þar skilja hins vegar leiðir með þessum mönnum og Páli Magnússyni, útvarpsstjóra. Hann er þó einn harðdrægasti stuðningsmaður menntamálaráðherra um að hlutafélagavæða RÚV. Auðvitað átti ég að heiðra Pál með...
8. Apríl 2006
...Réttilega segist hann líka vita af fenginni reynslu að það sé óskynsamlegt að taka skoðanakannanir of alvarlega, taka verði með í reikninginn hina mögnuðu kosningamaskínu Framsóknarflokksins. Björn Ingi segir um þá undravél – og það að líkindum einnig með réttu ef tekið er mið af undanförnum gósen-áratug flokksins í ríkisstjórn - að reynslan sýni “einfaldlega að í kosningabaráttu standast fáir framsóknarmönnum snúning og þá koma hinir sterku innviðir flokksins vel í ljós.” Gaman væri nú að Björn Ingi mundi upplýsa kjósendur aðeins meira um “innviðina sterku” sem munu fjármagna yfirvofandi auglýsingaherferð sem nú er á teikniborðum ímyndarhönnuðanna, herferðina sem á að...
Þjóðólfur
7. Apríl 2006

...Hvernig væri að menntamálaráðherra svaraði þeim rökum sem
Þorsteinn Pálsson, Birgir Guðmundsson og
Össur Skarphéðinsson hafa sett fram á frumvarp hennar.
Sjálfur hef ég í ræðu og riti komið á framfæri gagnrýni á umrætt lagafrumvarp en fátt hefur hins vegar verið um svör frá aðstandendum frumvarpsins. Einfaldlega er staðhæft að Ríkisútvarpinu muni vegna betur sem hlutafélagi en sem ríkisstofnun.
Helstu málsvarar frumvarpsins á Alþingi eru síðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem lagt hafa fram frumvarp um að Ríkisútvarpið verði einkavætt og selt og vísa ég þar í formann menntamálanefndar,
Sigurð Kára Kristjánsson en hann ásamt
Pétri H. Blöndal og
Birgi Ármannssyni hafa talað fyrir frumvarpi þessa efnis. Það frumvarp er sennilega einhver sérkennilegasta tilraun til lagasmíðar sem komið hefur frá frjálshyggjumönnum fyrr og síðar. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að eftir afnám Ríkisútvarpsins fái pólitískt kjörið útvarpsráð í hendur skattfé sem það ráðstafi til dagskrárgerðar. Ráðstöfun skattfjárins fari fram með útboðum, en hið pólitískt kjörna útvarpsráð leggi mat á efnið, þar á meðal fréttaefni. Ekki gleyma þeir félagar öryggisþættinum, því einnig hann á að bjóða út! Þetta makalausa frumvarp kom til umræðu á yfirstandandi þingi og voru þeir Pétur og Birgir þá einir flutningsmenn. Áður hafði Sigurður Kári verið í hópnum en sennilega hefur þótt heppilegra að hann væri ekki á frumvarpinu að þessu sinni því sem formaður menntamálanefndar Alþingis fengi hann það hlutverk að sannfæra þjóðina um að ekki standi til að selja RÚV eftir hlutafélagavæðingu heldur hlú að því í hvívetna! Hér er...
7. Apríl 2006
Ég sé í fjölmiðlum að Geir H. Haarde, utanríkisráðherra vill einkavæða Keflavíkurflugvöll. Ekki þykir mér það vera vel ígrunduð hugmynd eins og þú bentir á við umræðu á Alþingi. Það gerðu reyndar einnig þingmenn Framsóknarflokksins. Þeim leist ekkert á þeta tal í Geir og minntu á að þetta væri aðeins hugmynd og hefði hún ekki verið rædd í ríkisstjórn. Mér stórlétti við að heyra þetta. Við vitum hvílíkur styrkur er í Framsókn þegar á reynir. Um það tala ófá dæmi. Yfirlýsingar þeirra hafa alltaf reynst gulls ígildi, til dæmis loforð um að ekki verði hróflað við Íbúðalánasjóði eða að Ríkisútvarpið yrði ekki undir neinum kringumstæðum gert að hlutafélagi! Skyldi Framsókn fara fram af ...
Haffi
6. Apríl 2006
Birtist í Morgunblaðinu 05.04.06.
...Leiðari Þorsteins Pálssonar byggir á glöggum skilningi og pólitískri prinsippfestu. Hann hittir einfaldlega naglann á höfðuðið. Það er rétt að skírskota til breiðrar pólitískrar sáttar þegar Ríkisútvarpið er annars vegar. Það er líka rétt að auglýsingatekjurnar hafi helst farið fyrir brjóstið á samkeppnisaðilum og sennilega einnig hægri kantinum í stjórnmálum. Vinstri menn hafa haldið uppi málstað Ríkisútvarpsins, hvað sem á hefur dunið, jafnvel þótt mörgum hafi oft þótt talsverð hægri slagsíða á stofnuninni, ekki síst í seinni tíð. Nú er það hins vegar að gerast að sáttinni er sagt upp bæði til hægri og vinstri.
Það er mikill misskilningur hjá þeim forsvarsmönnum Ríkisútvarpsins, sem tala ákaft fyrir hlutafélagavæðingu, að stofnunin eigi vísan stuðning við...
5. Apríl 2006

Ríkisstjórn Íslands er óþreytandi við að reyna að sýna okkur fram á hve skynsamlegt sé að markaðsvæða raforkugeirann. Slíkt gefi góða raun. Að vísu reynist henni erfitt að sýna fram á ágæti þessa með dæmum því þau segja allt aðra sögu. Í nýútkomnu blaði sænskra bæjarstarfsmanna
SKTF-Tidningen, er að finna frásögn af afleiðingum
„markaðsvæðingar“ raforkugeirans í Svíþjóð. Sögusviðið er Stokkhólmur. Íbúar höfuðborgar Svíþjóðar höfðu rekið eigin raforkufyrirtæki
Stockholm Energi. Það var einkavætt, varð fyrst Birka Energi sem síðan var gleypt af finnska stórfyrirtækinu
Fortun. Síðan þetta gerðist, árið 2002, hafa rafmagnsreikningarnir í Stokkhólmi hækkað um 40%. Blaðið hefur eftir einum af forgöngumönnum þess að Stockholm Energi var einkavætt, Mats Hulth, sem fór með fjármál borgarinnar þegar þetta var ákveðið, að eftir á að hyggja hefði...
5. Apríl 2006
Þeir sem ekki eru innvígðir í skuggaveröld fjármálabraskara hafa flestir setið hljóðir hjá þegar vatnsgreidda þotuliðið íslenska sperrir stélin, innanlands sem utan. Gagnslaust er að spyrja hvaðan það fær hitann úr enda verður fátt um svör. Milljarðagróði, milljarðatap eru pókerfréttir dagsins og engum bregður lengur.
Í Mogga mínum þann 5.apríl segir af gefnu tilefni að "Ísland" sé ekki á leið í gjaldþrot. Vísað er í greiningu Moody´s sem segir frá "óstöðugleika" íslensku einkabankanna en telur þá þó trúverðuga vegna þess að íslenska ríkið sé þeim að baki ! Þotuliðið má spila áfram. Baktrygging íslenska ríkisins við íslenska einkabanka er nýlunda í eyrum flestra Íslendinga...
4. Apríl 2006
Í dag var haldinn fjölmennur fundur starfsmanna Ríkisútvarpsins. Lögfræðingur BSRB, Erna Guðmundsdóttir, fór yfir frumvarp ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu á Alþingi og gengur út á að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Á fundinum flutti útvarpsstjóri , Páll Magnússon, einnig ávarp svo og ég sem sótti fundinn sem formaður BSRB. Fulltrúar BHM og Rafiðnaðarsambandsins sóttu einnig fundinn.
Einkum voru það réttindamál starfsmanna sem voru til umræðu og gerðu starfsmenn Ríkisútvarpsins alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar. Í ályktun sem samþykkt var samhljóða var harðlega gagnrýnt að þrátt fyrir að heildarsamtök starfsmanna hafi bent á mikilvægi þess að breyta frumvarpinu til að tryggja réttarstöðu starfsmanna hafi engar breytingar verið gerðar á frumvarpinu sem lýst var sem...
3. Apríl 2006
...BBC þarf, engu síður en heilbrigðisþjónustan, að taka stöðugum breytingum svo því takist að starfa á eins markvissan hátt í framtíðinni og það hefur gert hingað til." Þetta segir Tessa Jowell, menningarmálaráðherra Breta í formála að skýrslu um framtíð breska útvarpsins BBC sem út kom fyrir réttu ári, í mars 2005 undir heitinu,
Review of the BBC´s Royal Charter. A Strong BBC, Independent of Government. Hvað þýðir þetta fyrir BBC? ...
"Hvers ætlast fólk til af BBC, nú þegar framboð á efni er eins mikið og raun ber vitni? Við komumst að þeirri niðurstöðu að mestu máli skipti að vita hver væri vilji eigenda BBC, þeirra sem borga brúsann, greiða reikningana. Við ákváðum að snúa okkur til þeirra." Og áfram heldur Tessa Jowell:
"Með skoðnakönnunum, með tilstilli rýnihópa, opinna umræðufunda, með hjálp internetsins fengum við sjónarmið þúsunda og aftur þúsunda. Skoðanir þessa fólks voru afar skýrar...Allt þetta er óralangt frá því sem er að gerast hér á landi. Hér á sem kunnugt er að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Hlutabréfið verður sett undir einn ráðherra. Síðan mun kosið útvarpsráð og mun skipan þess endurspegla ríkisstjórnarmeirihluta á Alþingi hverju sinni. Útvarpsráðið ræður síðan útvarpsstjóra sem verður nánast einráður um mannahald og framkvæmd dagskrár...2. Apríl 2006
Birtist í Morgunblaðinu 1. apríl 2006
Á Íslandi hefur verið nánast þverpólitísk sátt um stefnu í áfengismálum. Hún hefur gengið út á að hafa hemil á markaðsöflum við sölu og dreifingu á áfengi. Þess vegna er ÁTVR – Áfengis og tóbaksverslun ríkisins til. Annað veifið hafa ungir frjálshyggjumenn, einkum innan Sjálfstæðisflokksins en þó einnig innan annarra flokka, tekið upp baráttu fyrir afnámi ÁTVR. Þegar það hefur ekki tekist, m.a vegna andstöðu innan eigin flokka þessa fólks, hefur verið reynt að stíga smærri skref og koma léttvíni og bjór inn í almennar matvöruverslanir. Einnig þetta hefur mætt mikilli andstöðu. Til hvaða bragðs...
1. Apríl 2006
Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að Fídel Kastró Kúbuleiðtogi lætur brenna nærföt sín í stað þess að þvo þau þar sem hann óttast að eitur verði sett í þau til þess að ráða hann af dögum. Heimildamaðurinn um þetta óvenjulega varnarvopn Kastrós er fyrrum lífvörður hans, Delfin Fernandez, en hann sagði starfi sínu lausu vegna verkefnaskorts. Þessi einfalda og ódýra varnaraðferð Kastrós hefur gefið ótrúlega góða raun og varið hann gegn alls kyns hryðjuverkum. Þannig hefur. En hver er kveikjan að þessum fréttaflutningi Morgunblaðsins af félaga Fídel Kastró sem blaðið hefur ekki haft mikið dálæti á hingað til? Fréttin tengist greinilega yfirvofandi brottför hersins frá Miðnesheiði en íslensk stjórnvöld hafa einmitt lýst yfir miklum áhyggjum af hugsanlegum hryðjuverkum í herlausu landi. Í ljósi óttans annars vegar og reynslu Kastrós hins vegar verður það að teljast skylda Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra og skoðanasystkina hans í ríkisstjórn og Samfylkingar að skoða vandlega og fordómalaust hina...
Helgi Þ.
1. Apríl 2006

Ég heyrði ekki fréttir í gærkvöldi. Ekki heldur fréttirnar af samningaviðræðum við fulltrúa Bandaríkjastjórnar um framhald á
"varnarsamningi". Ég hef fregnað að Kani hafi einkum viljað vernda okkur fyrir spillingu og mansali! Halda samningamenn Bush ef til vill að þeir séu staddir í Eistlandi? Og skyldu þetta vera réttu aðilarnir til að vernda þjóð vora fyrir spillingu og mansali, sömu menn og flytja fanga utan dóms og laga landa á milli til að verða pyntaðir? Undirlægjuháttur íslenskra stjórnvalda er með ólíkindum. Það er hrikaleg tilhugsun að stjórnarerindrekar Íslands skuli liggja á hnjám frammi fyrir verstu stríðglæpamönnum veraldarinnar í betlibæn um að þeir verndi íslenska þjóð gegn öllu illu! Hvílík niðurlæging!! Halldór Ásgrímsson og Geir H. Haarde eru skelfingu lostnir yfir þeirri tilhugsun að...
31. Mars 2006
Heyrst hefur að Sigurður St. Arnalds kynningarstjóri Kárahnjúkavirkjunar sé nú að ljúka við sína fyrstu barnabók undir vinnuheitinu Lok, lok og læs og allt í áli. Grein hans í Morgunblaðinu síðastliðinn miðvikudag, “Gjaldeyrir þjóðarinnar vex ekki á rifsberjarunnum”, mun einmitt byggð á einum kafla bókarinnar. Í greininni skýrir hann fyrir nýbökuðum Hafnfirðingi, Eddu Björgvinsdóttur leikkonu, sem er eitthvað í nöp við álverið í Straumsvík að ekki verði lifað af loftinu einu saman og því síður rifsberjum. Sjálfsagt hefur Edda, eins og fleiri sem komnir eru af léttasta skeiði, haft gaman af lesningunni og kannski líka dálítið gagn. En eftir stendur sú spurning hvernig kynningarstjórinn ætlar að...
GMÞ
31. Mars 2006

Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er stjórnarandstaðan á Alþingi gagnrýnd harkalega...Hefur Morgunblaðið verið algerlega úti á þekju í stjórnmálaumræðu undanfarinna ára? Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur sett fram fjölda þingmála sem snúa að því að hemja markaðsöflin, koma í veg fyrir fákeppni, hvort sem er í bönkum og fjármálastarfsemi eða lyfjasölu. Margvíslega aðra starfsemi má nefna. Jafnan hefur þessu verið hafnað af stjórnarmeirihlutanum. Morgunblaðið hefur vissulega oft tekið undir með VG þegar þessi mál hefur borið á góma. Það sem hins vegar greinir okkur frá ritstjórum Morgunblaðsins er að við viljum ekki láta staðar numið við það eitt að reisa fjármagninu lagalegar skorður eftir að því hefur verið gefinn laus taumurinn, heldur höfum við viljað byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Þess vegna höfum við reynt að koma í veg fyrir einkavæðingu almannaeigna, nokkuð sem lítið fór fyrir hjá hinum ágæta krataforingja, Jóni Baldvin Hannibalssyni, sem Morgunblaðið vill nú hefja til skýjanna. Ég man ekki betur en ...
31. Mars 2006

Árni Mathiesen fjármálaráðherra tjáði sig á Alþingi í gær um láglaunafólk á hjúkrunarstofnunum. Hann sagði að það væri við þær að sakast að halda fólki á lágu kaupi. Hvaða stofnanir skyldi Árni fjármálaráðherra vera að tala um? Jú, hann er að tala um Hrafnistu, Sunnuhlíð, Grund, Skógarbæ og aðrar sjálfseignarstofnanir sem sinna sjúkum og öldruðum. Þær borgi lægst launaða fólki smánarleg laun, væntanlega af forpokuðum nánasarskap og nirfilshætti. En hvaðan skyldu þessar stofnanir fá sitt rekstrarfé? Það fá þær frá hinu opinbera. Hver skyldi nú vera fjárgæslustjóri hins opinbera og jafnframt sá sem féð skammtar? Það er fjármálaráðherra landsins, Árni nokkur Mathiesen.
Skyldu umræddar stofnanir ekki hugsa fjármálaráðherranum þegjandi þörfina? Þær eru að reyna að gera sitt besta en eru málaðar sem skratti á vegg og það af sjálfum skömmtunarstjóranum, Árna Mathiesen, sem telur sig vera lausan allra mála. Hann telur sig greinilega hafa allt sitt á hreinu, það skipti engu hvað hann segi, kjósendur Sjálfstæðisflokksins komi alltaf til með að skila honum inná þing.
30. Mars 2006

Í gær var frumvarp ríkisstjórnarinnar rifið út úr menntamálanefnd Alþingis þrátt fyrir óskir nefndarmanna um ítarlegri umfjöllun og ábendingar um að veigamiklum spurningum væri ósvarað. En menntamálaráðherra og útvarpsstjóra liggur á.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ráðherra, og nýskipaður útvarpsstjóri, Páll Magnússon, hafa ákaft kallað eftir stuðningi við að hlutafélagavæða RÚV og hefur útvarpsstjórinn ekki látið sitt eftir liggja í áróðrinum, innan stofnunar sem utan, síðustu daga og vikur. Hversu rétt það er að hann beiti sér í þessu efni á þennan hátt læt ég liggja á milli hluta – að sinni...Nú kemur til kasta Alþingis. Á endanum mun reyna á stjórnarmeirihlutann á þingi. Gæti kraftaverkið gerst? Gæti það gerst að stjórnarmeirihlutinn losaði sig úr viðjum einsýnnar hugmyndafræði og spyrði hvað skynsamlegast og réttmætast sé að gera við þá þjóðareign okkar sem Ríkisútvarpið er? Er það rétt og skynsamlegt að fjarlægja þessa eign eigendum sínum, þjóðinni, eins og frumvarp ríkisstjórnarinnar gengur út á, eða á að styrkja tengslin við þjóðina? Auðvitað á að gera hið síðarnefnda. Illa væri mér brugðið ef starfsmenn Ríkisútvarpsins sjá ekki að...
29. Mars 2006

...Haft er eftir Össuri í fjölmiðlum að forseti Þingmannasambands NATÓ, Pierre Lellouche hafi lýst undrun á framgöngu Bandaríkjastjórnar og hvatt til þess að íslenskir þingmenn tækju málið upp á aðalfundi sambandsins í París í vor. Af þessu tilefni langar mig til þess að stinga ábendingu að formanni íslensku NATÓ-deildarinnar og hún snýr að þessum nýfundna Íslandsvini. Staðreyndin mun vera sú að vandfundnari er hægri sinnaðri þingmaður á franska þinginu en téður Pierre Lellouche. Hann gagnrýnir hægri sinnuð frönsk stjórnvöld jafnan frá hægri og þótt hann nú gagnrýni Bandaríkjastjórn þá studdi hann Íraksinnrásina allra manna harðast á þeim tíma sem franska ríkisstjórnin hafði í frammi mótmæli gegn árásarstefnu Bandaríkjamanna og Breta. Eru það slíkir menn sem við erum að...
29. Mars 2006
Í DV má lesa að sölumaður hjá bílaumboði hafi verið rekinn fyrir að kaupa sér bíl frá öðru umboði, eða með öðrum orðum, frá samkeppnisaðila. "Ég var kallaður inn á teppið hjá forstjóranum og hreinlega rekinn fyrir að hafa keypt mér bíl sem annað umboð flytur inn," segir sölumaðurinn fyrrverandi í samtali við DV. Getur það verið að starfsmenn RÚV verði reknir fyrir að ...
28. Mars 2006

Árni Guðmundsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi og formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, hefur enn eina ferðina skrifað ríkissaksóknara bréf til að vekja athygli á áfengisauglýsingum en þær eru sem kunnugt er bannaðar lögum samkvæmt...Ég virði sjónarmið þeirra sem vilja breyta lögunum og heimila auglýsingar. Ég er einfaldlega ósammála þeim. Hina virði ég ekki sem hafa lögin að engu...
27. Mars 2006
...Illugi Gunnarsson á vissulega fullt erindi inn á vettvang stjórnmálanna. Hann er rökfastur og góður fyrir sinn málstað. Nema þegar hann skrifar um vatn. Það gerði IIlugi í Fréttablaðspistli sínum um helgina. Ekki var það góð grein. Það er mikil dirfska – mér liggur við að segja fífldirfska - að nota vatn og reynsluna af einkavæðingu vatnsveitna sem dæmi um ágæti einkaframtaksins... Í vatnsveitumálum fyrirfinnst engin samkeppni. Reynslan er sú að vatnsfyrirtækin skipta markaðnum á milli sín og hafa síðan samráð um verðlag. Neytandinn er þess vegna algerlega á þeirra valdi. Afleiðingin er hærra verðlag og lakari þjónusta. Þetta eru ...
26. Mars 2006
...Ráðherra Framsóknar segir það ekki hafa verið "til sóma" að sýna ekki meiri dugnað við einkavæðinguna. Valgerður getur þó huggað sig við það að í vikunni verður frumvarp hennar um að gera Rafmagnsveitur ríkisins að hlutafélagi tekið til annarrar umræðu á Alþingi. Það hlýtur ráðherrann þó að telja vera til sóma – eða hvað? En hver skyldi vera skýrinign á því að meira hefur ekki verið einkavætt á síðustu árum en raun ber vitni, þrátt fyrir heitstrengingar og svardaga í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Skyldi Íhaldið vera tregt í taumi hinna áköfu einkavæðingarsinna í ...
25. Mars 2006
Sérkennilegar eru kenningar um að óttinn sé tilvistargrunnur hverrar sjálfráða þjóðar í veröldinni. Óttinn kallar á varnir og verjur og því er sagt að herlaust ríki hljóti að vera óttalaust, viðrini án tilgangs og tilveruréttar. Óttinn er samkvæmt þessu ein helsta stoð sérhvers ríkisvalds, því án hans verður allt vopnaskak á vegum þess ríkis afkáralegt. Í raun er þó óttinn ekki aðalmálið. Vopnin eru það hinsvegar oft í höndum þeirra,sem fyrir löndum ráða. Vopn eru hið sýnilega valdstákn ríkis, sem að öðrum kosti er sagt laslegt og veiklulegt, gagnvart eigin þegnum og í samfélagi þjóða. Vopnin eru ofbeldistáknin sem verja eiga ríkið í senn gegn innri ógn og gegn ytri ógn. Vopnin eru kvíðabremsa er okkur sagt. Þau eru auðvitað valdatæki byggð á óttanum, ógn sem oftast er tilbúin. Vopnavaldið skapar óvini og ótta, heimskuhringurinn lokast...
24. Mars 2006

...Hitt er svo annað mál að við þurfum að horfa á þessi mál af raunsæi og yfirvegun og vera sjálfsgagnrýnin í þessum efnum. Ekki verður það sagt um Magnús Stefánsson, framsóknarþingmann. Hann kom fram í fjölmiðlum í gær sveipaður skikkju formanns fjárlaganefndar Alþingis. Hann tók undir gagnrýni í garð Danske Bank. Þetta veit Magnús að fellur í kramið hjá landanum því í hugum margra Íslendinga eru grunsemdir um að Danir geti ekki unnt Íslendingum velgengni innan okkar gamla konugsríkis, og skýri það gagnrýni þeirra i garð íslenskra stórfjárfesta! Í skjóli þessa stígur Magnús einu feti framar því hann notar tækifærið og spyrðir stjórnarandstöðuna á Íslandi eins og hún leggur sig saman við danska bankamenn og segir þennan mannskap allan fara með óábyrgan málflutning! Í fréttum RÚV í gær segir...Gagnrýni á stóriðjustefnu Framsóknarflokksins verður ekki afgreidd út af borðinu með þessum hætti. Við hljótum að frábiðja okkur niðurskurð í velferðaþjónustu á vegum ríkisins í komandi fjárlögum til þess að greiða götu stóriðjuáforma Framsóknarflokksins. Það eru þau sem valda þenslunni í íslensku hagkerfi, ekki launahækkanir láglaunafólks. Sem kunnugt er stefnir...
24. Mars 2006
...Ég sagði honum að þetta minnti mig á gamla daga, víxilinn fellur og ég þarf að sækja um framlengingu, spurningin var hvernig liggur á bankastjóranum. Nú standa einkavæddu bankastjórarnir skjálfandi á beinunum á biðstofunni eins og ég forðum og fá ef til vill ekki framlengingu. Hverjum datt í hug að stóra bankaævintýrið væri rekið á víxlum? Að sjálfsögðu sagði ég það sama og síðast, skiptu við lífeyrissjóði verkalýðshreyfingarinnar. Hvað um það, þegar ég hlustaði á fréttirnar áðan hafði Halldór ekki áhyggjur, bankastjórarnir höfðu engar áhyggjur, - þá fór ég að hafa áhyggjur. Öfugt við þetta er þegar sömu menn gerast áhyggjufullir, til dæmis rétt fyrir kjarasamninga, þá veit ég að allt er í góðu, léttist þá heldur lundin og maður ...
Runki frá Snotru
23. Mars 2006

Erindi sem David Hall, prófessor við háskólann í Greenwich i Englandi, flutti hér á landi í nóvember sl. um reynslu af einkavæðingu á vatni hefur nú verið gefið út í bæklingi undir heitinu,
Vatnsveitur í opinberri eigu og einkaeigu - hver er munurinn? David Hall býr yfir mjög yfirgripsmikilli þekkingu á málefninu en hann veitir forstöðu rannsóknardeild við háskólann sem kölluð er Public Services International Research Unit. Sú stofnun sérhæfir sig í rannsóknum á ýmsum þáttum almannaþjónustunnar. Sérsvið Davids er vatnið og reyndar rafmagnið einnig. Þá hefur hann rannsakað ýmislegt sem lýtur að heilbrigðiskerfinu, sorpeyðingu og öðrum grunnþáttum almannaþjónustunnar. Það er óhætt að mæla mjög eindregið með þessum bæklingi og fyrir alla þá sem láta sig vatnsveitur og rekstrarform þeirra varða, hlýtur þessi bæklingur að vera skyldulesning. David Hall kom hingað til lands á vegum BSRB og er hægt að nálgast bæklingin samkvæmt upplýsingum, sem er að finna...
23. Mars 2006
Hallgrímur Helgason rithöfundur skrifar um ritstjóra Morgunblaðsins í Morgunblaðinu 23. mars. Ekki nefnir hann ritstjórann á nafn, líklega til þess að ítreka huldumannshlutverkið sem hann gefur honum. Svo það fari ekki á milli mála: Ritstjóri Moggans heitir Styrmir Gunnarsson. Hallgrímur er hnyttinn, eins og stundum, áður og kemst að þeirri niðurstöðu að...Hallgrímur kallar óttablandna virðinguna fyrir Mogganum „seigustu meinloku íslensks samfélags”. Hér sýnist hann tala út frá þeirri meinloku sem nú ríður húsum í landinu að fjölmiðlar nútímans hljóti að vera alveg óháðir eigendum sínum. Fjölmiðlar verða aldrei lausir við „ok” eigandans hversu góðir sem starfsmennirnir kunna að vera sem blaða- og fréttamenn.... Þótt nú sé risið fjölmiðlaveldi, þar sem Morgunblaðið er bæði gott og vont. Það hefur í gegnum tíðina haft burði til að gera ýmislegt það best sem gert er á blöðum, á sama tíma sem það hefur verið ósvífinn og miskunnarlaus andstæðingur að kljást við. Þetta liggur...
22. Mars 2006

Í dag, 22. mars, er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna fyrir vatni. Verkalýðssamtök og margvísleg hagsmunasamtök almennings efna til vitundarvakningar af ýmsu tagi í dag til þess að vekja athygli á þeirri staðreynd að aðgengi að vatni telst til grundvallarmannréttinda og að með vatn eigi ekki að fara eins og hverja aðra verslunarvöru. ...
Frá World Water Forum berast þær fréttir... að meginniðurstaða ráðgjafaráðs Kofi Annans aðalritara Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á Mexíkóráðstefnunni sé sú “að opinberar veitur verði að gegna lykilhlutverki ...Þá hlýtur ekki síður að teljast fréttnæmt að Alþjóðabankinn kunni einnig að breyta stefnu sinni...21. Mars 2006
Mér finnst ágætt hjá ykkur þingmönnum að vekja athygli á atvinnumálum í tengslum við brottför hersins. Og það er líka góðra gjalda vert af fjölmiðlum að leggja áherslu á þetta m.a. með beinni útsendingu frá fundi forsætisráðherra hjá Framsóknarflokknum í Keflavík. Þegar við höfum verið að missa vinnuna á Vestfjörðum á undanförnum árum, og fyrirtækin að loka, m.a. vegna kvótakerfisins og ruðningsáhrifa stróriðjustefnunnar, minnist ég ekki beinna útsendinga í útvarpi og sjónvarpi. Valgerður iðnaðarráðherra sagði á þá leið að ruðningsáhrif gætu verið af hinu góða því fólkið færi þá þangað sem vinnu væri að hafa og annar framsóknarráðherra sagði...
Vestfirðingur
21. Mars 2006
Mig langar að gera athugasemd við gagnrýni sem þú setur fram í pistli á heimsíðu þinni varðandi Kastljósið í gærkvöld. Þar segir þú að spunameistarar Halldórs Ásgrímssonar hafi unnið fyrir kaupinu sínu með því að að tala sjónvarpið inn á að fylgjast með fundinum í Stapanum í beinni útsendingu á þeirri forsendu að þaðan væri að vænta stórkostlegra tíðinda. Þessi fullyrðing þín er alröng og ósmekkleg. Þú gerir ráð fyrir því að ég sem ritstjóri þáttarins leggi ekki sjálfstætt mat á efni þáttarins heldur þurfi að láta aðstoðarmenn ráðherra plata mig út í slíka útsendingu. Ég veit ekki hvernig þetta var þegar þú starfaðir sem fréttamaður en svona gerast hlutirnir ekki í Kastljósi. Ég tók þá ákvörðun á hádegi að senda beint, hluta af ræðu Halldórs þar sem ég taldi að tíðinda væri að vænta af þessum fundi enda var hann að hitta heimamenn í fyrsta skipti eftir ákvörðun Bandaríkjamanna. Einnig gerði ég ráð fyrir að hann segði frá fundi framkvæmdastjóra NATÓ og George Bush sem hann og gerði. Það má deila um hversu tíðindamikill þessi fundur var en mér fannst full ástæða til þess að sýna frá honum. Ég frábið mér hins vegar...
Þórhallur Gunnarsson,
ritstjóri Kastljóss.
21. Mars 2006
Ein merkustu tíðindi þessa dagana í umræðunni um efnahags og atvinnumál er tvímælalaust bók rithöfundarins og hugsjónamannsins Andra Snæs Magnússonar, Draumalandið- sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð.
Fyrirlestrar hans og viðtöl hafa svo sannarlega hrist upp í þjóðinni og munu vonandi vekja hana til sjálfsvitundar. Meginþorri þjóðarinnar vill stöðva frekari álversframkvæmdir, stórvirkjanir og umhverfisspjöll, samt stillir ríkisstjórnin því upp sem eina valkosti. Meginþorri þjóðarinnar vildi að herinn færi eða vissi að hann var á förum svo þegar hann fer er það blásið upp sem náttúruhamfarir og gífurlega ógn. Fjölmiðlar sýna fundi með forsætisráðherra í beinni útsendingu eins og um eldgos væri að ræða. Nú er það ávallt alvarlegt mál þegar fólk missir vinnuna. Það fannst fólkinu, tugum og hundruðum saman, sem missti atvinnuna á síðustu misserum í sjávarbyggðum á Vestfjörðum...
21. Mars 2006
...Það er dapurlegt til þess að hugsa að eftir allar fréttirnar af fjöldamorðum, ógninni og kúguninni, pyntingum og niðurlægingu, sem tengist innrásinni og hernáminu í Írak, skuli höfðinu enn vera barið við steininn í Stjórnarráði Íslands. Það er ennþá of snemmt að segja til um hvort innrás, sem nú hefur leitt til borgarastyrjaldar í landinu, hafi verið til góðs eða ills, segir forsætisráðherra þjóðarinnar!
Auðvitað kemur að því einhvern tímann að birtir yfir Írak. En það verður ekki vegna þess að Bandaríkjamenn og Bretar, með stuðningi viljugra vina sinna, réðust á þjóðina heldur þrátt fyrir þá árás og allar þær hörmungar sem...
20. Mars 2006
...Ég fæ ekki betur séð en Jón Baldvin sé tekinn aftur við forustu í Samfylkingunni eða Alþýðuflokknum með því nýja nafni. Síðustu daga hefur borið miklu meira á honum en Ingibjörgu Sólrúnu og fjölmiðlar virðast hafa meiri áhuga á að fá viðbrögð hans við því sem er að gerast en hennar. Fyrst var það nú afmæli Alþýðuflokksins þar sem Jón Baldvin var aðalmaðurinn ásamt hinum gömlu krötunum. Svo kom brottför hersins og aftur var aðallega talað við Jón. Og í gærkvöld var sagt frá því að Jón Baldvin ætti að móta nýja stefnu fyrir Samfylkinguna þegar herinn er að fara...Hitt er furðulegt ef hann getur bara komið si svona og tekið völdin í Samfylkingunni af nýja formanninum og ekki lengra liðið síðan hún hafði fyrir því að velta Össuri úr stólnum. Finnst þér þetta ekki ...
S. Pálsson
20. Mars 2006
...Spunamenn Halldórs sátu á fyrsta bekk á fundi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ í kvöld. Þeir höfðu greinilega unnið fyrir kaupinu sínu í dag; talað Sjónvarpið inn á að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu, sennilega á þeirri forsendu að þaðan væri að vænta stórkostlegra tíðinda. Svo reyndist ekki vera. Halldór sagði fundarmönnum og landsmönnum að hann hefði talað í síma við framkvæmdastjóra NATÓ, sem aftur hafði talað við Bush Bandaríkjaforseta. Niðurstaða samtalanna var sú að beðið yrði átekta! Heima í stúdíói voru tveir fyrrverandi pólitíkusar að ræða um framtíðina. Þetta var tilraun Kastljóss kvöldsins að vera með puttann á púlsinum...
19. Mars 2006
...Sannast sagna hélt ég að allir - hvar í flokki sem þeir standa - myndu sameinast um að halda vatninu í almannaeign og láta skilgreina það sem mannréttindi í stjórnarskrá landsins! Ef eitthvað ætti að vera þverpólitískt mál þá er það réttur okkar allra til vatnsins!!!
Ég er félagi í Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar og langar til að vekja athygli á ágætum pistli sem formaður okkar, Árni Guðmundsson, skrifar á heimasíðu í gær. Ég læt slóðina fylgja svo hvert og eitt okkar geti lesið og gert upp sinn hug...
N.B.
19. Mars 2006
...Ekkert var ákveðið í þessu efni en ljóst að ef hugmyndin um þverpólitíska aðkomu ætti að verða að veruleika, þyrfti vilji að vera fyrir hendi af allra hálfu...En það er ekki hægt að bíða endalaust og til þess að leysa málið – höggva á hnútinn - hefur formaður Samfylkingarinnar nú ákveðið einhliða að skipa hina þverpólitísku nefnd. Í fréttum í kvöld var okkur sagt að Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum formaður Alþýðuflokksins, yrði formaður nefndarinnar. Svona er hægt að leysa málin hratt og vel. Kannski verður skipuð önnur nefnd á morgun til að ná þverpólitískri sátt um heilbrigðismálin með sérstakri áherslu á gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu. Sighvatur Björgvinsson gæti orðið formaður í þeirri nefnd. Vanur maður. Svona má ...
18. Mars 2006
...Grimmd kallar á grimd og villimennska elur af sér villimennsku. Fáir búa yfir slíkum styrk að geta varðveitt velvild og skilning gagnvart féndum sínum og ofsækjendum. Hjá flestum okkar nær hatur og hefnigirni yfirhöndinni við slíkar aðstæður. En það er einnig annað sem gerist: Sjúkir einstaklingar, þeir sem haldnir eru grimmd og kvalalosta dafna og eflast, eru jafnvel hafnir upp til skýjanna...Séra Örn Bárður, sem stýrði pallborðsumræðum var góður að vanda. Hann minnti okkur á að forsenda fyrir friði og öryggi væri réttlæti. Í pallborðinu var margt ágætt sagt. Hallgrímur Helgason, rithöfundur, sagði, ef ég heyrði rétt: "Bleyðan sækir fram í djúpum stól." Hárrétt! Þetta minnir okkur á hlut Íslendinga, hinnar viljugu þjóðar; eða öllu heldur...
18. Mars 2006
Birtist í Morgunblaðinu 17.03.06.
...Hvers vegna sé ég mig knúinn til að tína til þessi ummæli Valgerðar Sverrisdóttur frá síðasta ári? Það er vegna þess að hún hefur leyft sér að saka mig og aðra þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um að falsa ummæli sín. Ég hef nú sett fram gögn á Alþingi sem sýna ótvírætt að ásakanir ráðherrans byggja á ósannindum. Hvorki ráðherrar né alþingismenn, né nokkur annar ef því er að skipta, eiga að komast upp með að ljúga fölsunum upp á pólitíska andstæðinga sína. Að slíku hefur Valgerður Sverrisdóttir nú orðið uppvís...
17. Mars 2006
...Í þessu leikriti, sem íslenskir ráðamenn vissu reyndar ekki að þeir væru þátttakendur í, hefur nefndur Halldór farið fremstur í flokki á undanförnum árum – og fer enn. Hann hefur lengst allra verið dreginn á asnaeyrunum og gott ef ekki um sjálft Hvíta húsið. Já, þær eru ófáar ferðirnar sem hann hefur farið til Bandaríkjanna á hnjánum til fundar við spunameistarana þar. Fróðlegt væri nú í þessu sambandi að fá staðgóðar upplýsingar um hvað Halldór Ásgrímsson hefur slitið hnén úr mörgum sparibuxum á þessum ferðum sínum vestur um haf. Upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins, Steingrími Ólafssyni, ætti ekki að vera skotaskuld úr því að draga saman í fljótheitum öruggar upplýsingar um buxnamál forsætisráðherrans. Fulltrúinn Steingrímur hefur nefnilega oftar en ekki sýnt að hann er sannkölluð...
Þorleifur
17. Mars 2006

...Skyldi Viðskiptaráðið halda að viðhaldspeningurinn komi af himnum ofan? Það gerir hann ekkert frekar en þeir fjármunir sem nýir eigendur Þjóðleikhússins, skólanna og allra þjónustustofnananna ætla sér í hagnað eftir að þeir komast yfir þessar eignir. Auðvitað verður það skattborgarinn sem kemur til með að blæða. Er það ekki ágætt fyrirkomulag að ríkið eigi sínar fasteignir og feli síðan verktakafyrirtækjum að annast ýmis viðhaldsverk eins og tíðkast hefur? Rétt er að láta hugmyndir Viðskiptaráðs um nýjan millilið lönd og leið...
16. Mars 2006
Á sama tíma og íslenska ríkisstjórnin fékk fyrirséða tilkynningu um brottför hersins, berast okkur fréttir af stórfelldum loftárásum á hið sigraða land Írak. Sjálfsagt hafa þoturnar fjórar haft þar hlutverki að gegna. Það er táknrænt að eftir 3 daga eru þrjú ár síðan ríkistjórn Íslands gekk í hóp hina “viljugu” stríðsglæpamanna, Bandaríkjamanna og Breta. Þingsflokksformaður Framsóknar orðaði það svo smekklega að samningsstaða okkar myndi áreiðanlega batna með staðfestu okkar. Hvað um það niðurlæging okkar er algjör. Nú á að róa á mið til Dana, var 17 júní 1944 ef til vill misskilningur?...
16. Mars 2006

...Víða um heim minnast menn nú þess að í dag eru liðin þrjú ár frá dauða þessarar ungu stúlku. Hún var tuttugu og þriggja ára gömul þegar ísraelskir hermenn myrtu hana. Morðið var framið á yfirvegaðan og kaldrifjaðan hátt. Um þennan atburð sagði ég á heimasíðun minni vorið 2003:
"Þessi unga stúlka, sem var einlægur friðarsinni, vildi koma í veg fyrir að hús palestínskrar fjölskyldu yrði jafnað við jörðu. Hún stóð í vegi fyrir jarðýtunni sem var notuð til þess verknaðar. Fyrst var hent braki og jarðvegi yfir stúlkuna og þegar hún féll til jarðar var ýtt yfir hana, handleggir og fótleggir brotnuðu og höfuðkúpan brákaðist. Hún lést skömmu síðar. Þetta gerðist 16. mars ...14. Mars 2006
...Umræðan um vatnalagafrumvarpið hefur verið fróðleg um margt. Sérstaklega hefur verið athyglisvert að fylgjast með því hvernig verktakar ríkisstjórnarinnar úr stétt lögfræðinga hafa gegnt lykilhlutverki í fjölmiðlum. Höfundar frumvarpsins og ýmsar "hægri hendur" ráðherra hafa verið kynntar til leiks sem lögfræðingar og sérfræðingar til þess að staðhæfa að ríkisstjórnin hafi rétt fyrir sér! ... Þá þykja það vera rök í málinu af hálfu forsætisráðherrans að lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sé til þess fallið að aðlaga lög að hæstaréttardómum á liðnum áratugum...En jafnvel þótt svo væri, þá eru þetta haldlítil rök... Bæði hér á landi og í grannlöndum okkar færist það hins vegar í vöxt að dómstólar taki sér pólitískt vald og sveigi þannig lögin með túlkunarvaldi sínu. Dómstólar gegna þannig sífellt stærra hlutverki í þróun löggjafar. Dómstólarnir verða ágengari og löggjafinn sífellt lítilþægari gagnvart dómsvaldinu hvað þetta snertir...En er það ekki hlutverk okkar að bæta það sem fyrir er? Okkur mun gefast kostur á því. En til þess þurfum við að fella stjórnarmeirihlutann í næstu alþingiskosningum. Þá verður afleitt vatnalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar aldrei að lögum...
13. Mars 2006
Sem betur fer er fólk í landinu að vakna til vitundar um að brjálæðisleg stóriðjustefna ríkisstjórnarflokkanna gengur ekki lengur. 63 % landsmanna vill ekki fleiri álver en Framsóknarflokkurinn með Sjálfstæðisflokkinn sér við hlið heldur áfram á sömu braut og áður og gefur nú álrisum lausan tauminn. Farið er í betliferðir til Ameríku til að hlusta á stóradóm Alcoa um hvar þeir vilji að næsta álver þeirra rísi. Öfgafull álvæðingarstefna Framsóknar er að flytja okkur á endastöð og af þessari leið verður að snúa...Við viljum byggja á fjölbreytni en ekki einhæfum atvinnurekstri. Er eitthvert vit í því að selja 80 % af allri framleiddri raforku til þriggja álfyrirtækja eins og staðan verður árið 2008? Nei, auðvitað ekki. En það er greinilegt að ekkert getur stoppað álflokkana annað en atkvæði greitt Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Þannig getum við...
13. Mars 2006
Að gefnu tilefni velti ég því fyrir mér hve marga aðstoðarmenn Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, hafi ráðið til starfa í forsætisráðuneytinu. Björn Ingi Hrafnsson er titlaður aðstoðarmaður ráðherra, ef ég man rétt. Hann er kraftmikill pólitískur áhugamaður og betri en enginn fyrir sinn mann. Það má í sjálfu sér segja líka um Steingrím Ólafsson, upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins. Allt gott um það, nema hvað ég hefði haldið að upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins héldi örlítið aftur af framsóknarmennskunni í sjálfum sér þegar hann notar embættistitil sinn í opinberum blaðaskrifum. Það gerir Steingrímur Ólafsson hins vegar ekki. Í dag skrifar hann grein í Blaðið, sem...
12. Mars 2006
...Þetta þótti mér koma skemmtilega fram í ávarpi Benedikts Davíðssonar, fyrrum forseta Alþýðusambands Íslands, sem minnti samkomugesti á að hann væri orðinn svo gamall í hettunni að hann hefði sjálfur átt samstarf við Ottó N. Þorláksson, einn helsta frumkvöðulinn að stofnun Alþýðusambandsins og fyrsta forseta þess. Þeir hefðu átt samstarf á vettvangi verkalýðsbaráttu en einnig hefðu þeir samtímis átt sæti í miðstjórn Sósíalistaflokksins. Benedikt lagði áherslu á þessar sögulegu víddir þegar hann beindi sjónum að samtíð og framtíð og sagði mikilvægt að á vettvangi stjórnmálanna yrði barist fyrir þeim hugsjónum og baráttumarkmiðum sem hin upprunalega jafnaðarstefna Alþýðuflokksins hefði hvílt á. Það er rétt sem Benedikt Davíðsson gaf í skyn í ræðu sinni að Alþýðuflokkurinn tók miklum breytingum í tímans rás og er ég hræddur um að mörgum frumkvöðlanna hefði brugðið í brún ef þeir hefði séð...
12. Mars 2006
...Þetta er ekki aðeins mikilvægt fyrir heyrnarlausa og þeirra menningu heldur ekki síður hina heyrandi, að komast inn í heim heyrnarlausra eins og haft var á orði í Viðtalinu. Leikritið orkaði sterkt á mig – vel upp byggt og leikurinn góður. Nú hef ég í langan tíma haft áhuga á málefnum heyrnarlausra og talið mig all-meðvitaðan um þau. Á sýningunni rann upp fyrir mér hve mikið vantar þar uppá! Leikritið segir frá tveimur mæðgum sem fyrst byrja að ræðast við sem einstaklingar á jafnræðisgrundvelli þegar dóttirin, sem er heyrnarlaus, er komin á fullorðinsaldur. Dóttirin talar táknmál en móðirin ekki. Þegar mæðgurnar fara að ræðast við með aðstoð túlks opnast nýjar víddir í tilverunni og margt frá liðinni tíð fær nýja merkingu. Það verður ...
12. Mars 2006
Alveg gekk vita fram af mér að sjá í sjónvarpinu áðan alla gömlu kratana á fíneríissamkomu í Ráðhúsinu og vera að hæla Alþýðuflokknum fyrir öll góðverkin. Ég man nú ekki betur en síðasta ríkisstjórn sem Alþýðuflokkurinn var í hafi innleitt sjúklingaskattana, hækkað skólagjöld og tekjutengt allar bætur til aldraðra, öryrkja og barnafólks. Nú segist Samfylkingin vera arftaki Alþýðuflokksins og vera stolt af því, og þá væntanlega öllu sem kratarnir gerðu. Og því má spurja, er þá Samfylkingin líka arftaki í því að fara í bólið með íhaldinu hvenær sem það býðst. Ég tek eftir því að frú Ingibjörg Sólrún útilokar alls ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn í miklu stássviðtali í Fréttablaðinu nú um helgina. Hún er þar að tala um þann vanda í íslenskri pólitík að Sjálfstæðisflokkurinn hafi alltaf getað...
gamall Dagsbrúnarmaður
11. Mars 2006
Hagfræðin er stundum skiljanlegri fyrir leikmenn en hagfræðingarnir. Þannig skrifa tveir af kunnustu hagfræðingum þjóðarinnar í marga áratugi, Jónas H. Harals og Tryggvi Þór Herbertsson, grein í Morgunblaðið laugardaginn 11. mars og hvetja landsmenn til að ganga hægt um gleðinnar dyr. Þeir telja Íslendinga lifa góséntíð í upphafi 21. aldar en á þeim er að skilja að margir kunni sér ekki hóf, þar á meðal hið opinbera, ríki og sveitarfélög. Nú sé þó svo komið að bankar skuldi of mikið erlendis, hinir erlendu lánveitendur hafi áhyggjur af sínum hag. Viðbrögðin við þessum vanda er að ganga hægt um gleðinnar dyr – kunna sér hóf – annars fari illa. Meðal heilræða hagfræðinganna er þetta: „Á næstu árum verða ríki og sveitarfélög og hverskonar opinberar stofnanir að halda að sér höndum um opinberar framkvæmdir, jafnframt því sem fylgt er fullri ráðdeild í rekstri.” Þessi orð eru eins og gatslitinn texti á 78 snúninga hlómplötu. Samhengið á milli þess að útlendir bankar láni íslenskum einkabönkum og óttist um sinn hag og þess að sveitarstjórnarmenn dragi úr framkvæmdum og haldi þjónustu í lágmarki útskýra þeir hins vegar ekki. Ef hinir útlendu bankamenn hafa...
11. Mars 2006
Það gerist stundum að manni verður orðavant. Ég er svo gamall að ég man Stóru Bombu, þ.e. þegar Jónas frá Hriflu var úrskurðaður geðveikur. En fyrir þá sem yngri eru þá var Jónas, stofnandi Framsóknarflokksins úrskurðaður geðveikur af læknum íhaldsins.
Þegar Valgerður Sverrisdóttir beitir fyrir sig feminisma í röksemdafærslu sinni í Evrópumálum er spurning hvort ...
Snjólfur frá Djúpadal
10. Mars 2006
Það er orðið langt síðan ég skrifaði þér síðast. Ástæðan er annir og samfellt ættarmót. Nýju vatnalögin hafa gert það að verkum að ótrúlegustu menn eru orðnir frændur mínir. Að vísu vissu þeir allir að stórfljót rennur undur jörð minni, einnig er óvenju mikil þoka viðvarandi hér í Snotru, eins og þú þekkir...Þá er það þetta í 1.gr
“Markmið laga þessara er skýrt eignarhald á vatni...
Runki frá Snotru
9. Mars 2006

Í vikunni tók Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, pokann sinn og yfirgaf ráðuneyti og þing. Spunnust af þessu orðaskipti á Alþingi. Fyrir mitt leyti kvaddi ég Árna og óskaði honum velfarnaðar með þessum orðum:
"Hæstv. forseti. Fyrst hin persónulegu skilaboð, síðan hin pólitísku skilaboð. Persónulega þykir mér eftirsjá að Árna Magnússyni úr stjórnmálum og óska ég honum alls góðs. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að segja að við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs óskum öllum hrókeruðum hæstv. ráðherrum og þingmönnum velfarnaðar í starfi og brottförnum að sama skapi." Þetta voru persónulegar kveðjur og vil ég leggja áherslu á, að persónulegar velfarnaðaróskir félaga minna í VG og sjálfs mín til handa Árna Magnússyni, eru hugheilar. Hefur mér líkað prýðilega við manninn eins og þeir sem til þekkja vita. En Árni er ekki bara Árni. Hann er líka áhrifamaður í innsta hring Framsóknarflokksins og...
9. Mars 2006
...Allt er þetta drengilega mælt og dæmigert fyrir andrúmsloftið í flokki þar sem eindrægni og samhugur ríkir, þar sem menn reyna eftir mætti að sjá eigin kosti í öðrum - í flokki þar sem engir kújónar lúra á bak við tjöldin og bíða færis að vega að flokkssystkinum sínum. Ég tek heils hugar undir orð Björns Inga en langar þó að bæta örlitlu við sem mér hefur fundist einkenna pólitíska framgöngu Guðjóns Ólafs frá upphafi. Hann hefur jafnan verið afar rökfastur og málefnalegur og aldrei látið slá sig út af því ábyrga lagi þótt hart hafi verið að honum sótt með alls kyns skítkasti og neðanbeltishöggum pólitískra andstæðinga. Þessir eiginleikar skipta að sönnu ómældu máli fyrir kjörþokkann og svo spillir heldur ekki fyrir sá góðlátlegi húmor sem Guðjón hefur til að bera - og sem hefur fleygt vinsældum hans hátt á loft og langt yfir allar hefðbundnar flokksgirðingar. Það er ósk okkar framsóknarmanna allra, og vafalaust margra fleiri, að...
Smiður Jónsson
8. Mars 2006
Ég fæ ekki betur séð en fjölmiðlarnir séu að draga upp nýjar átakalínur í heilbrigðisumræðunni. Í gærmorgun var mættur í morgunútvarp til að ræða heilbrigðismál, Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu, og í gærkvöld sátu þau á skrafi hann og Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokksins einnig að ræða heilbrigðismál. Bæði vilja þau einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni nema hvað greiða á fyrir þjónustuna með skattpeningum. Ríkisstyrktur einkarekstur hefur alltaf verið snar þáttur í íslenska heilbrigðiskerfinu en deilurnar nú snúast um það hvort halda eigi lengra út á þá braut. Þar sýnist mér ekki hnífurinn ganga á milli Ágústs og Ástu....Sannast sagna sé ég engan mun á þessum tveimur flokkum þegar kemur að stefnumörkun í heilbrigðismálum þótt Samfylking gangi um í þessu máli, eins og mörgum öðrum...
Haffi
8. Mars 2006
Það er langt síðan þvílíkur kraftur hefur verið í kvennabaráttunni á Íslandi eins og nú um mundir. Þegar haldið var upp á 30 ára afmæli kvennafrísins á síðasta ári sýndu konur samtakamáttinn og blésu til stærstu mótmæla Íslandssögunnar þann 24. október. Því miður er enn þörf á slíkum mótmælum þar sem jafnrétti er ekki náð og frelsið er ekki einu sinni í augsýn. Kynjamisréttið er svo inngróið í okkar kerfi og svo nálægt okkur öllum að margir eiga erfitt með að koma auga á hið auljósa. Enginn segist vera hlynntur misrétti kynjanna en samt erum við öll sek um að viðhalda valdakerfi sem hyglir körlum á kostnað kvenna. Baráttan nú um mundir snýst einmitt um að véfengja allt kynjakerfið sem við lifum og hrærumst í. Það er ekki nóg að breyta einstaka lagabálkum eða koma á fót einstaka nefndum til að kryfja málið. Við verðum að hugsa upp á nýtt og setja nýjar leikreglur sem rúma bæði kynin. Stjórnmálin, fjármálastofnanir, fjölmiðlarnir, atvinnulífið og heimilin þurfa að endurskoða gildi sín með...
8. Mars 2006

...Þá má nefna fund á vegum
Bríetar á Dubliners í Reykjavík kl. 20:00, þar sem meðal annars er lesið úr ræðu baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá árinu 1887. Listamenn og stjórnmálamenn koma fram á þessum fundi, þar á meðal
Kolbrún Halldórsdóttir, sem fellur undir báðar skilgreiningarnar svo og
Drífa Snædal frá Kvennaathvarfinu. Drífa skrifar pistil hér á síðuna í dag þar sem hún segir meðal annars um jafnréttisbaráttuna:
"Að lokum munum við öll hagnast á jafnrétti því eins og sagan sýnir eru það ekki bara konur sem njóta afraksturs jafnréttisbaráttunnar heldur samfélagið allt. Aldrei er meiri ástæða til að halda baráttunni áfram, styrkja samstöðuna og breyta ríkjandi gildum og hefðum. Ég óska öllum jafnréttissinnum til hamingju með daginn og óska okkur gæfu í hinni krefjandi byltingu sem ekki verður umflúin." Sjá nánar...
7. Mars 2006
Ég hef fengið nokkur viðbrögð á ummæli mín á Alþingi í gær um hótanir Alcan um að loka álverinu í Straumsvík, yrði ekki farið að vilja álrisans um heimildir til stækkunar álversins. Ég byggði á ummælum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra hvað þetta snertir. Hann kallaði þetta ekki hótanir en í mínum huga var augljóst að álrisinn hafði gert forsætisráðherra þjóðarinnar ljóst hvaða afleiðingar það myndi hafa yrði ekki farið að vilja hans. Ýmsir hafa tekið allt annan pól í hæðina en ég gerði og má þar nefna ágætan fastan penna hér á síðunni, Helga Guðmundsson, en á ágætri heimsíðu sem hann rekur Þjóðviljanum á Skaganum ... Annar aðili sem fram hefur komið og fagnað yfirlýsingum Alcans eru aðstandendur "Ál Andvöku" sem ber yfirskriftina:
Gerum betur, Ísland nr 1. Hún verður haldin í dag og hefst klukkan 17:30 á Kaffi Hljómalind ...."... Mínar málsbætur fyrir að vekja athygli á hótun Alcans um lokun eru af tvennum toga og nefndi ég þær við umræður á Alþingi í gær. Annars vegar er um að ræða...
6. Mars 2006

Öfgafull stefna Framsóknarflokksins í stóriðjumálum veldur samstarfsflokknum í ríkisstjórn undrun og vaxandi áhyggjum. Sérstaklega hafa
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra flokksins, viðrað áhyggjur sínar, að vísu með dulmáli því ekki vilja þeir ganga of nærri Framsókn, sem af skiljanlegum ástæðum er sérstaklega taugaveikluð þessa dagana. Athygli vekur að Árni Matthiesen, fjármálaráðherra, hugsanlega af misskilinni samstöðu með álvinum sínum í Hafnarfirði, vill ekkert slæmt heyra um stóriðjuna...Öllu þessu hefur verið haldið til haga í þinginu. En eitt hefur gleymst. Það er ekki bara
Kristinn H. Gunnarsson, sem haldið hefur uppi andófi í Framsóknarflokknum. Í þessu máli er það nefnilega ekki síður varaformaður flokksins, sjálfur
Guðni Ágústsson, sem varað hefur við álæðinu í flokknum. Þetta hefur Guðni gert á afdráttarlausan og skeleggan hátt. Þessa dagana situr Guðni brúnaþungur á ráðherrabekk Alþingis og er...
5. Mars 2006
Í lesendabréfi hér á síðunni skrifar Haffi af mikilli léttúð og ábyrgðarleysi um stefnu Samfylkingarinnar í stóriðju- og umhverfismálum. Hann sakar okkur Samfylkingarfólk um hentistefnu vegna þess að við styðjum af heilum hug fyrirhugaða álversframkvæmd í grennd við Húsavík. Og af hverju skyldi þessi mikilvæga atvinnuuppbygging norðan heiða vera hentistefna að dómi Haffa? Jú, hann er haldinn því dómgreindarleysi að það sé ekki hægt að vera hvort tveggja í senn; stóriðjusinni og umhverfissinni! Haffi skilur ekki – enda vinstri grænn að eigin sögn – að það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þannig höfum við í kosningaundirbúnings- og samræðustýrihópi...
Þorsteinn
5. Mars 2006

Össur Skarphéðinsson skrifar pistil á heimasíðu sína í lok vikunnar sem hann nefnir
Ögmundur – og hlekkir hugarfarsins. Tilefnið voru skoðanaskipti okkar á Alþingi um Evrópusambandið og hvort eftirsóknarvert væri fyrir Íslendinga að sækja þar um aðild. Össur vísar til þess að ég hafi sagt á þá leið í þinginu að ESB
"væri einangrunarsinnað innilokunarsamband sem hentaði ekki hagsmunum Íslendinga." Mikið rétt. Í framhaldinu fjallar Össur um tollamúra Evrópusambandsins og spyr...Mér hefur oft orðið það umhugsunarefni þegar menn jafna löngun til að ganga í Evrópusambandið við alþjóðahyggju. Evrópusambandið byggir fyrst og síðast á einangrunarhyggju. Það er miðstýrt og þunglamalegt skrifræðiskerfi sem öllum vill þröngva inn í sama þrönga farveginn. Mér er fyrirmunað að skilja að mönnum finnist það vera eftirsóknarvert hlutskipti fyrir þjóð eins og okkar, sem býr yfir sjálfstæðum lýðræðislegum tækjum til að stjórna sjálf sínu lífi, að gerast þarna innmúrað aðildarríki með völd sem mælast í prómillum. Á sínum tíma sat ég með Össuri í EFTA nefnd Alingis. Þar var...
4. Mars 2006
"Stefna Samfylkingarinnar í stóriðjumálum er skýr segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins." Þetta segir í frétt Blaðsins á föstudag. Í mínum eyrum hljómar þetta eins og hver annar brandari. Haft er eftir Ingibjörgu Sólrúnu að Samfylkingin sé hlynnt því að fá álver á Húsavík. Hins vegar eigi álverin ekki að verða fleiri á næstunni og fyrirvarar eru tíndir til sögunnar. Stuðningur við stórðijuna virðist mér ótvíræður. Ég man ekki betur en ég sæi...Þegar hins vegar fulltrúar Samfylkingarinnar koma á fundi umhverfissinna bregður svo við að þeir eru mjög andvígir stóriðjustefnunni og virkjunum norðan heiða! Auðvitað má með sanni segja að hentistefna sé stefna. En eðli máls samkvæmt verður aldrei sagt að..
.Haffi
3. Mars 2006

Eitt helsta áhugamál ríkisstjórnarinnar er sem kunnugt er að einkavæða raforkukerfi landsmanna. Liður í þeirri viðleitni er stjórnarfrumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi um að gera Rafmagnsveitur ríkisins að hlutafélagi. Áður hafa ráðherrar lýst þeim ásetningi sínum að selja fyrirtæki í raforkugeiranum...Nú hefur matsfyrirtækið Fitch, sem nýlega kom við sögu í íslenskri efnahagsmálaumræðu, sent frá sér skýrslu þar sem fram kemur að markaðsvæddur raforkugeiri sé óáreiðanlegri og lakari en raforkukerfi á vegum samfélagsins. Þetta kemur fram í frétt á fréttavef BSRB en að öllum ólöstuðum hafa þau samtök fingurinn betur á púlsinum þegar almannaþjónustan er annars vegar en flestir ef ekki allir aðilar hér á landi. Sjá...
2. Mars 2006

Það er hressandi að heyra í Skagfirðingum þessa dagana, enginn uppgjafartónn þar á bæ. Það skiptir máli að Vinstrihreyfingin grænt framboð á aðild að sveitarstjórninni í Skagafirði. Í yfirlýsingu sem kom frá VG í Skagafirði í dag er minnt á að
" Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur vildu álver í Skagafjörð og voru tilbúin til að fórna skagfirsku Jökulsánum og náttúru þeirra. Vinstri grænir stóðu einir stjórnmálaflokka í Skagafirði með Jökulsánum og Héraðsvötnum ... ...Ég hef kynnt mér niðurstöður könnunarinnar og furða mig á því að spurningar um pólitíska afstöðu manna eru ekki birtar í þeim niðurstöðum sem hafa verið gerðar opinberar. Ég hef hins vegar heyrt frá nokkrum einstaklingum sem lentu í úrtaki þessarar könnunar Framsóknarflokksins...
2. Mars 2006
Birtist í Morgunblaðinu 01.03.06.
...Það hlýtur þó að vekja forystumenn Sjálfstæðisflokksins til umhugsunar að 42% stuðningsmanna flokksins eru þessari stefnu andvígir. Ég hef fyrir satt að Sjálfstæðisflokksforystan sé farin að hafa þungar áhyggjur af offorsi þeirra Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra og Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, þegar stóriðjustefnan er annars vegar. Það er eitt að vilja virkja, annað að gera virkjun í þágu erlendra álhringa að köllun sinni og hugsjón. Almennt vill fólk að stefna í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar verði mótuð af yfirvegun og á forsendum íslenskra hagsmuna. Það hefur ríkisstjórnin ekki gert og skrifast það að sjálfsögðu á reikning hennar allrar. Öllum má þó ljóst vera að...
1. Mars 2006
Stundum segja menn meiningu sína í spurningum. Og ef menn vilja leggja áherslu á meiningu sína setja menn spurninguna í fyrirsögn. Það gerir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, í pistli á heimasíðu sinni í dag. Einar K. spyr: "Þolir efnahagslífið frekari stóriðjuframkvæmdir?" Sjávarútvegsráðherra Sjálfstæðisflokksins er greinilega felmtri sleginn yfir hinum yfirlýsingaglaða framsóknarráðherra Valgerði Sverrisdóttur, sem í dag sótti fund forstjóra auðhringsins Alcoa í New York ásamt íslenskum sveitarstjórnarmönnum til þess að hlýða á boðskap þeirra um hvar á Íslandi þeir hygðust reisa næsta álver sitt! Valgerður, iðnaðarráðherra Íslands, sem hafði forgöngu um að niðurlægja þjóðina með þessari för til New York, sagði í fréttaviðtali í dag að ... Sá tími er liðinn að Sjálfstæðisflokkurinn geti leyft sér að sitja á áhorfendabekkjunum í þessu risavaxna hagsmunamáli þjóðarinnar. Enda þótt Framsókn dragi álvagninn þá staðnæmist hann á því augnabliki sem Sjálfstæðisflokkurinn segir stopp...
28. Febrúar 2006
Ágætur er pistillinn um Alcan og börnin hér á síðunni. Þú segir að áróðursátaki Alcan sé nú beint að börnum. En tekur þú ekki eftir að í þessu merki frá Alcan, sem þú birtir með pistlunum, eru foreldrarnir spurðir, “ÁTT ÞÚ LÍTINN SNILLING?” Þannig að það er ekkert verið að bíða eftir að börnin vaxi til manns, það er verið að höfða til hreykinna foreldra. Þannig að það þarf ekkert að bíða eftir uppskeru áróðursins þar til börnin verða stór, hún hefur tilætluð áhrif á fullorðin börn! Þetta eru lymskuleg vinnubrögð. Ögmundur, hvenær á að...
H.
28. Febrúar 2006
Indriði H. Þorláksson, ríkisskattstjóri, er einn af þeim fáu opinberu embættismönnum, (einkum í efstu lögunum) sem talar skýrt. Ævinlega skal hann setja mál sitt fram á skýran og auðskilinn hátt: Skattbyrði þegnanna ræðst af þeim útgjöldum sem valdhafarnir ákveða. Efnislega þetta sagði hann í Kastljósi sjónvarpsins 27. febrúar sl. Morgunljóst og auðskilið hverjum manni. Hvernig þessu sköttum er skipt á milli þegnanna er allt annað mál. Í því birtist einatt skýrasti munurinn á milli hægri og vinstri manna. Núverandi ríkisstjórn, með Framsóknarflokkinn hægra megin við miðju, hefur á afar skýran hátt framfylgt hægri stefnu með þeim afleiðingum að...Frá samræðustjórnmálamönnum af vinstri kantinum kemur svo nýtt útspil. Þeir taka að sönnu undir með Stefáni Ólafssyni en hrópa eins hátt og þeir mögulega geta: Fjármálaráðherrann innheimtir hæstu skatta Íslandssögunnar! Svo finna sumir þeirra upp einföld upphrópunardæmi eins og: Stimpilgjöldin eru svívirða! Og halda um það heitar ræður á Alþingi Íslendinga en aðfluttur Skagamaður spyr sjálfan sig: er ekki allt í lagi með þetta fólk? Ríkisskattstjórinn sagði það sem skiptir máli um innheimtuna í heild sinni ...
28. Febrúar 2006
Valgerður Bjarnadóttir skrifar ágætar "
Vangaveltur um prófkjör" í
Fréttablaðið í dag. Greinin hefst á þessum orðum:
"Forystukona vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í vor sagði í útvarpsþætti um daginn eitthvað í þá áttina að hún teldi stjórnmál snúast um lífsviðhorf, meðal annars þess vegna hefði hún efasemdir um prófkjör stjórnmálaflokka sem væru öllum opin, líka þeim sem ekki væru flokksbundnir. Ég er hjartanlega sammála konunni um að stjórnmál snúist um lífsviðhorf en er samt ekki viss um að það leiði mig til sömu niðurstöðu um hvernig haga eigi vali á framboðslista stjórnmálaflokka, eða hverjir megi koma að slíkum ákvörðunum…"
Það sem ég furða mig á er að sú kona, sem Valgerður Bjarnadóttir gerir að umræðuefni í blaðagrein sinni,
"forystukona vinstri grænna", skuli ekki fá að njóta nafns síns. Ekki bara hennar sjálfrar vegna heldur...
27. Febrúar 2006
Tilefni þessa pistils er þó ekki nýjustu afrek Alcoa heldur Alcan, sem rekur álverið í Straumsvík. Vaxandi andstaða er gegn stækkun þess. Hvað skal þá til bragðs taka? Að sjálfsögðu er hafin áróðursherferð. Við því er lítið að segja nema hvað henni er einkum beint að yngstu kynslóðinni. Nú á að finna stærðfræðisnillinginn í hópi hennar. Þetta er að sjálfsögðu kynnt sem græskulaust gaman með teiknimyndum og öllu tilheyrandi. En er þetta bara græskulaust gaman? Er til of mikils mælst að börnunum verði hlíft?
26. Febrúar 2006
Ég hafði sem endranær gaman af síðasta bréfi Ólínu hér á síðunni um skuggann sem fylgir Halldóri Ásgrímssyni og heitir Steingrímur Hermannsson. Annars eru þeir ótrúlegir þessir spunadrengir Halldórs, ekki vegna uppátækjanna til að koma formanni Framsóknarflokksins á framfæri heldur fyrir klaufaganginn. Ótrúlegt var að fylgjast með því þegar...Síðan var náttúrulega allur fréttaatgangurinn með beinum útsendingum frá fótboltavelli í London ... En hver skyldi hafa borgað miðann fyrir Halldór og ráðuneytisstjórann á leik Chelsea og Barcelona? Kaupthing, Avion Group, eða eitthvað annað fyrirtæki...?
Haffi
26. Febrúar 2006
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, átti síðasta orðið í Silfri Egils í dag nema það hafi verið Egill sjálfur. Þeir voru nokkuð sammála félagarnir, höfðu miklar skoðanir, ekkert síður þáttastjórnandinn en gestur hans, þegar þeir ræddu um alþjóðastjórnmál, "brjálæðinginn", sem er forseti Írans, eins og Egill komst að orði, "öfgasamtökin" Hamas í Palestínu, nauðsyn á greiningardeild Björns Bjarnasonar hjá lögreglunni sem á að fjalla um landráð og greina hættur sem að okkur kunna að steðja í framtíðinni. Það síðastnefnda var í framhjáhlaupi og tjáði Egill sig ekki um það efni en fróðlegt hefði verið að heyra Björn færa rök fyrir því að stóri forræðishyggjubróðir hafi puttann á púlsinum – okkur til verndar gegn öllu illu með sérstakri greiningar- og landráðadeild innan lögreglunnar. Reyndar varð Birni Bjarnasyni tíðrætt um mikilvægi þess að...
24. Febrúar 2006
Mér datt í hug í morgun þegar ég sá að Steingrímur Hermannsson, forveri Halldórs Ásgrímssonar í embætti formanns Framsóknarflokksins, tók sig til og leiðrétti spunadrengi forsætisráðherra í Morgunblaðinu að þarna væri komin enn ein staðfestingin á að sigurvegararnir skrifuðu söguna. Hann benti þeim kurteislega á góðra vina fund sinn með Thatcher forsætisráðherra Breta fyrir 18 árum, fund sem var hér í öllum fréttum og fréttaskýringaþáttum 1988. Varstu ekki sjálfur með fréttaskýringu um málið? Steingrímur leiðrétti eftirmann sinn með sínum hætti. Baneitraður og tvíræður kom hann skilaboðum sínum á framfæri á sinn tvíræðan hátt þó þannig að hann stimplar sig inn hjá fólki sem gengur um með opin augu og eyru. Í tilkynningunni sem forsætisráðuneytið sendi frá sér og stendur uppi á heimasíðu ráðuneytisins nú í morgun segir: “Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti fyrr í dag fund í Downingstræti 10 með Tony Blair forsætisráðherra Bretlands. Á fundinum minntust ráðherrarnir þess að um þessar mundir eru 30 ár síðan forsætisráðherra Íslands heimsótti starfsbróður sinn í Bretlandi síðast.” Steingrímur Hermannsson bendir í Morgunblaðinu á að...
Ólína
22. Febrúar 2006
Í fréttum greinir frá því að margfalt fleiri vilji að Silvía Nótt verði næsti borgarstjóri Reykvíkinga en Dagur B. Eggertsson. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Samfylkinguna. Spurt var hvort menn vildu fremur sjá í stóli borgarstjóra, Dag eða Silvíu Nótt, ef valið stæði einungis á milli þeirra tveggja. 72% nefndu Silvíu Nótt og 11% Dag. 10 af hundraði vissu ekki um hvaða Dag væri að ræða og...
Helgi Þ.
21. Febrúar 2006
Vilhjálmur Bjarnason, aðjunkt við Háskóla Íslands, hefur staðhæft, að skoðun á efnahagsreikningi þýska bankans, Hauck & Aufhauser, fyrir árið 2003 hafi leitt í ljós, að bankinn hafi ekki verið einn kaupenda Búnaðarbankans einsog fulltrúar seljanda bankans, þ.e. ríkisins, fullyrtu þegar salan fór fram. Einkavæðing Búnaðarbankans, forvera KB banka var sem kunnugt er afar umdeild enda færði hún nokkrum aðilum í hendur gífurleg verðmæti á spottprís. Margir þeirra, sem voru viðriðnir þessa sölu og hafa hagnast um himinháar upphæðir, eru jafnaframt nátengdir Framsóknarflokknum. Á Alþingi vísar forsætisráðherrann, sem jafnframt er formaður Framsóknarflokksins og viðskiptaráðherrann, sem einnig er úr Framsóknarflokki, öllum athugasemdum á bug og þar við situr, - eða hvað? Nú er komin fram í þinginu fyrirspurn frá undirrituðum þar sem m.a. er...
20. Febrúar 2006
...Bandaríkin og Evrópusambandið taka þátt í nýjustu mannréttindabrotunum gegn palestínsku þjóðinni; hóprefsingu fyrir að kjósa yfir sig stjórn sem er ekki Ísrael og Bandaríkjastjórn að skapi...En...lýðræðið, á það bara við þegar niðurstaðan er stjórnendum heimsins í hag? ... Auðvitað væri þetta ekkert annað en hlægilegt ef málið væri ekki grafalvarlegt. Það er alvarlegt fyrir Íslendinga að horfa upp á fasismann og ofbeldið, sem Bandaríkin, þetta svokallaða bandalagsríki okkar, beitir alla þá sem ekki leggjast í duftið. Ekki batnar það þegar haft er í huga að ríkisstjórn Íslands lítur á stjórnina í Washington sem alveg sérstaka...
19. Febrúar 2006
Silvía Nótt kom, sá og sigraði í forkeppni Eurovision – með miklum yfirburðum. Af lítillæti sínu þakkaði hún samkeppendum sínum ,
"upphitunarhljóm-
sveitunum", fyrir þeirra framlag. Silvíu Nótt er ekki fisjað saman. Hún óskar Íslandi til hamingju með hve stórfengleg heppni það hafi verið fyrir landið að hún skuli hafa fæðst á Íslands foldu. Auðvitað er Silvía Nótt...að gera grín, henda gaman að sjálfsupphafningu samtímans. Það eru þeir hins vegar ekki að gera sigurvegarar prófkjöranna sem nú, hver á fætur öðrum, stíga sveittir út úr prófkjörsslagnum, smurðir og sponsoreraðir í bak og fyrir, og að sjálfsögðu yfir sig ánægðir ... Getur verið að það sé nokkuð til í því, sem
Svandís Svavarsdóttir, efsti maður á lista VG í Reykjavík, sagði...
19. Febrúar 2006
Birtist í Morgunblaðinu 18.02.06.
...Uppbygging stóriðju hefur yfirskyggt allt annað í atvinnustefnu stjórnvalda á undanförnum árum. Æ fleiri telja brýnt að gera grundvallarbreytingar á þeirri stefnu, svo að leggja megi grunn að uppbyggingu og framförum í íslensku samfélagi á traustum og varanlegum forsendum. Atvinnulíf verður að hvíla á sjálfbærum grunni eigi uppbygging þess að standast til langframa. Reynsla seinustu ára sýnir að þróttmikil nýsköpun í atvinnulífi og lítil og meðalstór fyrirtæki hafa mesta vaxtarmöguleika, skapa flest störf og skila þjóðarbúinu mestu. Með því að styðja slíka atvinnuþróun má auka útflutningstekjur þjóðarinnar og stuðla að hagvexti án þess að gengið sé á höfuðstól náttúrunnar. Fjölmargar ástæður renna stoðum undir þá hugmynd að frekari framvinda stóriðjustefnu og tilheyrandi bygging stórvirkjana verði ráðin í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu sem allir atkvæðisbærir landsmenn geti tekið þátt í. Einmitt nú eru slík tímamót að...
18. Febrúar 2006
...Nú er bjart framundan hjá Þorgerði Katrínu, menntamálaráðherra. Þegar hún verður búin að ganga endanlega frá Ríkisútvarpinu og gera Pál Magnússon að einvaldi um dagskrá og mannaráðningar, þá mun Sylvía Nótt verða aðalþula og strákarnir af Stöð2 lesa fréttir berrassaðir. Ég er hræddur um að þetta...
Kveðja,
Haukur
17. Febrúar 2006
...Að kvöldi sama dags og hin athyglisverða rannsóknarniðurstaða þingmannsins birtist vildi svo til að fréttastofa Ríkissjónvarpsins flutti fregnir af Þjóðarpúlsi Gallups um fylgi stjórnmálaflokkanna. Merkilega lítill samhljómur var með þeim púlsi og hinum kraftmikla framsóknarpúlsi sem slegið hafði af miklum þunga fyrr um daginn. Nægir í því sambandi að líta til Norðausturkjördæmis, kjördæmis Birkis Jóns Jónssonar og raunar einnig áldrottningarinnar, hinnar virkjunarglöðu Valgerðar Sverrisdóttur. Ef marka má niðurstöðurnar virðist amk. allnokkur sjónarmunur á þjóðarpúlsi Gallups annars vegar og svo vandaðri úttekt framsóknar – fræðimannsins Birkis Jóns hins vegar. Samkvæmt könnuninni hefur fylgi Framsóknarflokksins hrapað úr 33% frá síðustu þingkosningum og niður í 15%. Öðru máli gegnir um Vinstrihreyfinguna grænt framboð sem fékk 14% fylgi í síðustu kosningum. Þjóðarpúlsinn sýnir nú fylgi við hana upp á 25%. Og hvernig má það vera, Ögmundur, að fjórðungur kjósenda í kjördæmi Birkis Jóns skuli nú telja sig eiga samleið með flokki sem að hans sögn á ekkert “erindi í íslensk stjórnmál”? Getur verið að ...
Þjóðólfur
17. Febrúar 2006

Þessari spurningu, hvað finnst ykkur um Dysnes, beindi einn fundarmanna að forstjóra Alcoa á fundi á Akureyri um síðustu mánaðamót ( sbr. Fréttir
NFS 1.feb. sl.) Fundurinn var fyrsti kynningarfundur samráðsnefndar um álver á Norðurlandi. Engin svör fengust á fundinum en í fréttum af honum kom fram að Alcoa hygðist bíða enn í nokkrar vikur áður en yfirlýsing yrði gefin út um hvort þeir hafi áhuga á norðlensku álveri og þá hvort það muni rísa í Skagafirði, við Húsavík eða á Dysnesi við Eyjafjörð.
Næsta sem gerist í málinu er að
svæðisútvarp Norðurlands upplýsir...Einhver nýlendubragur þykir mér yfir þessu. Það hentar Alcoa betur að fá Íslendingana til
New York til að hlýða á boðskap sinn heldur en ómaka sjálfa sig á því að ferðast til Íslands. Í fréttatíma RÚV sama dag er “nýlendufréttin” síðan áréttuð:
“Alcoa ákveður 1. mars hvort og þá hvar verður haldið áfram með undirbúning að byggingu álvers á Norðurlandi. Verkefnastjórn hefur verið boðuð til fundar í New York nefndan dag og þá verður tekin...17. Febrúar 2006

Í gær voru greidd atkvæði um þjónustutilskipun Evrópusambandsins á Evrópuþinginu. Enn á Ráðherranefnd ESB eftir að taka afstöu til tilskipunarinnar eins og þingið afgreiddi hana í gær. Athygli vekur að eini fjölmiðillinn sem fjallar að marki um þetta mál hér á landi er vefsíða BSRB, bsrb.is, en þar eru okkur færðar fréttir af viðbrögðum við atkvæðagreiðslunni í gær. Viðbrögðin eru enn sem komið er nokkuð misvísandi og ljóst að samtök og stjórnmálaflokkar túlka útkomuna á mismunandi veg. Vandinn verður án efa sá að endanlegir úrskurðir um túlkun tilskipunarinnar koma til með að ráðast fyrir dómstólum en ljóst er að markaðssinnar hafa í seinni tíð sett traust sitt á þá. Þess vegna fallast þeir iðulega á loðið orðalag tilskipana ESB og láta síðan dómurum eftir að...
16. Febrúar 2006

...Þarna er með öðrum orðum komin skýringin á meintum þvergirðingshætti Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Þeir hafna tilboði um að byrjunarlaun þeirra verði komin í 125 þúsund krónur í árslok 2008! Hvílíkt vanþakklæti eða hvað? Síðan er hitt, að í launum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna eru þættir sem almennt standa utan grunnlauna hjá öðrum stéttum. Þetta hefur Vernharð Guðnason, formaður sambandsins tíundað skilmerkilega í fréttum undanfarna daga. Þegar dæmið er gert upp hefði verið nær fyrir Morgunblaðið að slá því upp að samninganefnd sveitarfélaga hafi boðið stétt sem stundar vandasöm, krefjandi og hættuleg störf byrjunarlaun sem nemi 125 þúsund krónum – ekki núna – heldur að þau verði komin í þessar himinhæðir eftir tæp þrjú ár! Ég er sannfærður um að kröfur Landssambands slökkviliðsmanna...
15. Febrúar 2006
Einu sinni var sagt að pólitík væri undarleg tík, gott ef ekki ólíkindatól hið versta. Nú um stundir, eins og reyndar oft áður, verður maður að taka undir þessa einföldu skilgreiningu, en ekki endilega að sama skapi viturlega. Þannig hefur á undanförnum mánuðum komið í ljós að landsþekktur geðprýðismaður að nafni Jón Kristjánsson – heilbrigðisráðherra Framsóknarflokksins – sem þar að auki hefur orð á sér fyrir að vara vandaður maður af gamla skólanum – lendir hundfúll í röklausum skotgröfum þegar honum er bent á að eitthvað kunni nú að vera að tryggingakerfinu...Hér með kem ég þessu ráði á framfæri við Jón Kristjánsson...
15. Febrúar 2006
Það ætlar ekki af veiðifélaga varaforseta Bandaríkjanna að ganga ef marka má fréttavef Ríkisútvarpsins. Bandaríski lögmaðurinn Harry Whittington, sem Dick Cheney varaforseti skaut við kornhænuveiðar um helgina, var aftur lagður inn á gjörgæsludeild í dag eftir vægt hjartaáfall. Búist er við að hann verði á sjúkrahúsi næstu daga á meðan hann er að ná sér. Cheney varaforseti er sagður hafa rætt við Whittington í dag eftir hjartaáfallið. Um efni viðræðnanna er ekki vitað á þessu stigi en þess má geta að Cheney er ekki eingöngu reynslubolti í sportveiðum. Hann er einnig gamalreyndur ...
Helgi Þ.
15. Febrúar 2006

... Myndirnar lýsa viðbjóðslegu atferli. Því reynir enginn að neita. Ekki einu sinni talsmaður Hvíta hússins í Washington. Hann lét þess sérstaklega getið í yfirlýsingu í dag að sérlega
"óheppilegt" væri að myndirnar birtust núna, í því andrúmslofti sem hefði skapast í samskiptum vestrænna ríkja við Arabaríkin og átti þá væntanlega við þá reiðiöldu sem risið hefur í kjölfar myndbirtinga Jyllandsposten. Já, það er nefnilega það, óheppilegur tími! Er ekki alltaf réttur tími til að upplýsa um grimmdarverk?...Í vikunni birtu fjölmiðlar víða um heim fréttir af rannsóknarskýrslu sem er í burðarliðnum um pyntingar í bandarísku herstöðinni í Guantanomó á Kúbu. Hún er unnin af fimm sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna fyrir Mannréttindanefnd SÞ. Viðbrögð í Washington hafa að sjálfsögðu verið neikvæð. Í fyrsta lagi var reynt að ...
14. Febrúar 2006
...Tilskipunin kom til umræðu á Evrópuþinginu í dag en atkvæðagreiðsla um hana fer fram á fimmtudag. Tekist hefur samkomulag milli hægri flokkanna og sósíaldemokratísku flokkanna á Evrópuþinginu um tilteknar breytingar á tilskipuninni. Það er hins vegar bæði svo að verkalýðshreyfingin hefur efasemdir um að samkomulagið haldi þegar til kastanna kemur í atkvæðagreiðslu og síðan er hitt að almennt þykir samkomulagið ekki ná nærri nógu langt. Aðeins íhaldssömustu öflin innan verkalýðshreyfingarinnar telja nógu langt gengið en meginþorrinn telur það fjarri lagi, einkum varðandi þá þætti sem lúta að almannaþjónustunni. Almennt er litið á þjónustutilskipun ESB sem...
13. Febrúar 2006
Á fréttavef Ríkisútvarpsins greinir frá því að Harry Whittington, 78 ára bandarískur lögmaður, liggi á sjúkrabeði eftir að hafa orðið fyrir haglaskoti úr byssu Dick Cheneys varaforseta Bandaríkjanna í fyrrakvöld. Þeir Whittington voru að sögn á kornhænuveiðum þegar slysið varð. Lögmaðurinn er ekki sagður alvarlega slasaður en hann fékk höglin í kinn, háls og brjóst og mun Cheney hafa heimsótt bráð sína á sjúkrahúsið í gær. Þá segir ennfremur frá því á fréttavef RÚV að sjálfur hafi Cheney þurft að dveljast á sjúkrahúsi í síðasta mánuði vegna andþrengsla. Hann sé með gangráð og hafi fjórum sinnum fengið hjartaáfall. Ekki verður beinlínis séð hvernig heilsufarsfréttirnar af varaforsetanum tengist skotveiðunum nema þá...
Helgi Þ.
11. Febrúar 2006
Í Kastljósþætti í vikunni kvað Ágúst Guðmundsson stjórnarformaður Bakkavarar marga fjárfestingarkosti vera hagkvæmari en stóriðju. Allt of mikið hafi verið einblínt á stóriðjuna, ávöxtunarkrafa Kárahnjúkavirkjunar væri of lítil. Á þetta hafa hagfræðingar bent mjög lengi en talsmenn áliðnaðar á Íslandi hafa ekki lagt við hlustir, heldur hamast nótt sem nýtan dag að selja meir af ódýru rafmagni sem ekki má fréttast á hvaða kjörum er selt. Hví skyldi svo vera? Er einhver minnsti möguleiki á, að þessir talsmenn stóriðjunnar njóti í einhverju góðs af þessum gríðarlegu og óafturkræfu náttúruspjöllum sem er grundvöllur gífurlegrar auðsöfnunar á vegum stóriðjunnar?
Ýmislegt bendir til, að spilling og mútur séu ekki mjög fjarri íslensku þjóðlífi um þessar mundir...
10. Febrúar 2006
Alveg er ég hissa á því hve lítið hefur verið rætt um innkomu Sjálfstæðisflokksins í 365 miðla, fjölmiðlana sem forsystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa uppnefnt sem Baugsmiðla og þannig gefið í skyn að þeir hljóti að vera undirgefnir eigendum sínum. Vissulega hefur þetta verið rætt en ótrúlega lítið þar sem um það er að ræða að stórkanónum í Sjálfstæðisflokknum er nú hverri á fætur annarri komið fyrir í lykilstöðum þessa fjölmiðlaveldis, sem jafnan hefur verið talið standa nærri Samfylkingunni. Í Silfri Egils um síðustu helgi sagði einhver, gott ef það var ekki Egill sjálfur, að...
Haffi
10. Febrúar 2006
Geir H. Haarde, utanríkisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, kom
Framsóknarflokknum til hjálpar á Alþingi í dag þegar
Jón Bjarnason þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krafði
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formann Framsóknarflokksins um skýringar á álstefnu Framsóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar...Augljóslega hefur Halldór beðið Geir um að vera við álumræðuna á Alþingi í morgun og hjálpa sér að svara Jóni Bjarnasyni. Þetta gerði Geir illu heilli fyrir Sjálfstæðisflokkinn og formann hans. Í allan dag hef ég verið að hitta fólk sem lýst hefur hve dapulegt hafi verið að fá fréttir af ræðu Geirs H. Haarde til varnar stóriðjunni. Ég hef minnt viðmælendur mína á að...
8. Febrúar 2006
Birtist í Morgunblaðinu 07.02.06.
...Morgunblaðið spyr í Staksteinum sl. föstudag, hvort stjórnarandstaðan sjái nú ekki að setja þurfi löggjöf um eignarhald fjölmiðla. Ég vil spyrja á móti hvort Morgunblaðinu finnist ekki ástæða til að endurskoða áform um að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. Hlutafélagavæðing mun fyrr eða síðar leiða til sölu fyrirtækisins. En jafnvel þótt það ekki gerðist í bráð þá er hitt staðreynd að með hlutafélagavæðingu myndi stjórnsýslan gerbreytast að því leyti að pólitískt ráðinn útvarpsstjóri fengi nánast alræðisvald yfir mannahaldi og dagskrá, á sama tíma og dregið yrði úr gagnsæi stofnunarinnar. Verkefnið ætti að vera að draga úr heljartökum stjórnarmeirihlutans á Ríkisútvarpinu, bæta hag og kjör starfsmanna, setja stjórnsýsluna í markvissari farveg og stuðla að enn meira gagnsæi en nú er. Allt þetta er hægt að gera án þess að breyta stofnuninni í hlutafélag og það sem meira er...
8. Febrúar 2006
...Ég er farin að binda vonir mínar við Morgunblaðið. Ekki beinlínis fyrir sjálfa mig heldur fremur börnin sem ég kom í þennan heim og öll barnabörnin. Þetta segi ég af því ég bind vonir við að Morgunblaðið geti orðið hryggstykkið í betri fjölmiðlum og heiðarlegri opinberri umfjöllun í nánustu framtíð en til þess þarf Morgunblaðið að breytast sem ég vona að gerist...Af hverju fer ekki Morgunblaðið sömu leið og Politiken, eða Dagens Nyheter, blöð sem gegndu svipuðu hlutverki og Morgunblaðið fyrir nokkrum áratugum? Það yrði mikil lyftistöng fyrir Morgunblaðið, gott fyrir opinbera umræðu og nauðsynlegt aðhald fyrir fjölmiðla sem skrifaðir eru kringum auglýsingar og beina og óbeina hagsmuni eigenda sinna...Varstu ekki að segja í Silfri Egils á sunnudaginn var að almenningur ætti sjálfur að kjósa hvort hann greiddi fyrir ríkisútvarp ef ríkisútvarpinu verður breytt í hlutfélag rétt eins og Dagsbrún? Er það ekki sjálfsagt næsta skref og verðum við þá ekki að binda trúss okkar við Morgunblaðið? Það fannst okkur vinkonunum sem sumar kjósa VG þegar við hittumst síðast yfir hvítvínsglasi, og okkur fannst jafnvel að um þessa lausn gæti “skapast breið samstaða”...
Ólína
8. Febrúar 2006

...Ólína gerir það að tillögu sinni að ljósmynd sem í gærmorgun birtist í Morgunblaðinu af bankastjórum Landsbankans verði útnefnd mynd þessa árs. Hún minni um margt á myndina af þeim félögum Finni og Ólafi þegar þeir fengu Búnaðarbankann að gjöf árið 2002. Á Morgunblaðsmyndinni í gær, segir Ólína, "sátu fyrir búralegir bankastjórar glaðbeittir og ánægðir með mikinn hagnað bankans sem líka var seldur fyrir slikk ekki alls fyrir löngu. Í forgrunni var skilti sem á stóð: Fáðu meira fyrir launin þín. Afhjúpandi mynd og afstrakt sem sjálfsagt hefur vakið fleiri menn til umhugsunar um launatekjur, hagnað og sölu ríkiseigna en tveir eða þrír leiðarar á miðopnu Morgunblaðsins. Myndirnar tvær sýna að morgunblaðsmenn eru vakandi í vinnunni......" Allt kann þetta að vera satt og rétt hjá Ólínu en ég minni á að árið er rétt að hefja göngu sína. Að svo stöddu skulum við láta nægja að útnefna þá félaga Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason sem fyrirsætur mánaðarins. Vel má vera að myndin endi sem verðlaunamynd ársins. Hver veit nema...
7. Febrúar 2006
Í ársskýrslu Landsbankans kemur fram að launagreiðslur til Halldórs J. Kristjánssonar bankastjóra námu 149 milljónum króna á síðasta ári, en hluti þeirrar upphæðar tengdist að vísu uppgjöri á kaupréttarsamningum. Greiðslur til Sigurjóns Þ. Árnasonar bankastjóra námu 83 milljónum króna samkvæmt ársskýrslunni og alls fengu 16 framkvæmdastjórar sviða og dótturfélaga greiddar samtals 598 milljónir í laun og hlunnindi eða hver um sig að meðaltali 37,4 milljónir. Halldór var sem sagt með 12,4 milljónir á mánuði, Sigurjón með litlar 6,9 milljónir og 16 framkvæmdastjórar fengu að jafnaði 3,1 milljón á mánuði í sinn hlut. Út af fyrir sig geta þetta ekki kallast ...
Þjóðólfur
7. Febrúar 2006

Auðvitað á að taka skoðanakönnunum með varúð. Líka könnunum í Norðvestur-kjördæmi. Það hlýtur þó að vera saga til næsta bæjar þegar skoðanakannanir sýna fylgi stjórnmálaflokks vaxa um helming. Það hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð gert frá síðustu alþingiskosningum ef marka má nýjustu skoðanakönnun Gallup. Hverju er þetta að þakka? Í Skagafirði hafa samherjar í VG staðið sig vel við stjórnvölinn í sveitarstjórnarmálum og í landsmálum hefur flokkurinn einnig staðið sig afar vel undir gunnfána Jóns Bjarnasonar alþingismanns, sem hefur verið óþreytandi í ferðum og erindrekstri um kjördæmið og stöðugt að gæta að hagsmunum þess á Alþingi. Enginn hefur verið ötulli og eindregnari en Jón Bjarnason í baráttunni til verndar jökulsám Skagafjarðar. Hefur mjög mætt á honum í því efni upp á síðkastið og flutti hann fimm tíma magnaða og hugsjónaþrungna ræðu um málefnið á þingi fyrir fáeinum dögum. Henni gleymir hvorki ég né Valgerður Sverrisdóttir. Á vefriti Skagfirðinga segir frá þessum framgangi VG í ...
6. Febrúar 2006
Í fréttum Ríkisútvarpsins sl. laugardag var staðhæft að samskiptavandamál væru algengari í ríkisfyrirtækjum en í fyrirtækjum á einkamarkaði. Skýringin liggi í því að auðveldara sé að reka fólk í einkafyrirtækjum en hjá hinu opinbera vegna "ráðningarfyrirkomulags"! Einkafyrirtækin hafi ekki "efni á því" að láta vandamál danka. Svo er að skilja að öðru máli gegni um opinberar stofnanir! Fréttastofa RÚV hefur eftir kennara við viðskiptaskor Háskóla Íslands, Þórði S. Óskarssyni, að vandinn séu lög sem gildi um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Það sem háskólakennarinn vísar hér til eru ákvæði þess efnis að...
6. Febrúar 2006
Mig langar til að biðja þig að birta litla frétt sem var á netsíðu viðskiptablaðs Morgunblaðsins, mbl.is í fyrradag ...Fyrirsögnin hjá Morgunblaðinu var sú sama og ég bið þig um að hafa á þessu lesendabréfi: "Fikt, einkahlutafélag sem er fjárhagslega tengt Finni Ingólfssyni, stjórnarmanni í bankanum og forstjóra VÍS, keypti í gær 76 þúsund hluti í KB banka á genginu 928. Verðmæti bréfanna var því um 70 milljónir króna. Í tilkynningu til Kauphallar segir að Finnur eigi enga hluti í bankanum en fjárhagslega tengdir aðilar eigi 28,4 milljónir hluta eftir þessi viðskipti. Að framvirkum samningum meðtöldum eru hlutirnir um 30 milljónir talsins sem félög tengd Finni eiga í KB banka. Markaðsvirði þeirra hluta er um 28 milljarðar króna...
Haffi
5. Febrúar 2006
...Já, svona er nú sýn Hjálmars Árnasonar og ég ætla leyfa henni að njóta sín um stund. Áður en lengra er haldið langar mig nefnilega að vita hver þessi “ágæti” maður er sem hló svona “ógurlega” af því að hann vissi ekki hvort skattarnir hefðu hækkað eða lækkað? Varla hefur það verið láglaunamaður eða maður með miðlungstekjur því af eigin raun veit almenningur mætavel að skattbyrðin hefur aukist undanfarin tíu ár þrátt fyrir fullyrðingar stjórnvalda um allt annað. Og ekki hefur Hjálmar setið á spjalli við Stefán Ólafsson prófessor sem varpaði skýru ljósi á skattastefnu ríkisstjórnarinnar í Morgunblaðinu 18. janúar sl. Stefán nefndi stefnuna með réttu “stóru skattalækkunarbrelluna” og telur málflutning stjórnvalda um almennar skattalækkanir ...
5. Febrúar 2006
Er ekki hægt, nú þegar öllum er orðin ljós sú skaðsemi sem nýju raforkulögin hafa í för með sér með auknum kostnaði og flóknara kerfi, að taka þau mál á einhvern hátt upp á Alþingi. Auðvitað var það augljóst öllum heilvita mönnum hverjar afleiðingar slíkra kerfisbreytinga yrðu, þó að iðnaðarráðherra og stjórnarliðið skellti skollaeyrunum við því. Með ólíkindum er, að nokkrum skyldi koma til hugar að hægt yrði að koma upp virkri samkeppni á rafokusviðinu þannig að almenningur hefði hag af, enda ekkert líklegra en að orkufyrirtækin sameinist fyrr en síðar á einn eða annan hátt, sem þýðir að gagnleg samkeppni til lækkunar orkuverðs verður trúlega aldrei annað en...
ÁG
5. Febrúar 2006
...Það er ástæða til að þakka Fréttablaðinu fyrir þennan fréttaflutning. Það eina sem ég hef við fullyrðingar talsmanna orkufyrirtækjanna að athuga í frásögn blaðsins er að þeir gleyma Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra, þegar þeir segjast engan þekkja sem lýst hafi ánægju með lögin. Það hefur Valgerður nefnilega margoft gert. Það er kannski vegna þess að hún ein virðist vera þeim hæfileikum búin að sjá lækkun þegar aðrir sjá hækkun. Nú er spurningin þessi...
4. Febrúar 2006
Birtist í Blaðinu 03.01.05
...En er ekki merkilegt að öll fínu og flottu rökin fyrir einkavæðingu Sjónvarpsins og öll sú dökka mynd sem dregin er upp af ríkisstofnuninni RÚV skuli bara eiga við hér út í Dumbshafi, en ekki um sams konar fyrirtæki í ríkisrekstri annars staðar, t.d. í Danmörku? Er það ekki sérstakt rannsóknarefni fyrir menntamálaráðherra hvernig á því stendur að Danmarks Radio, ríkisbatterí fjármagnað með afnotagjöldum, gat framleitt og selt til 42 Evrópulanda Matador - margverðlaunaðan þátt, eða Króníkuna, eða Taxa, eða Rejseholdet - eða það sem safnar Íslendingum fyrir framan viðtækin - sakamálaþáttinn Örninn sem fékk alþjóðleg verðlaun fyrir nokkrum mánuðum, eins og fleiri þættir, sem DR hefur framleitt? Og hvað er það í danska ríkisrekstrinum og afnotagjöldunum sem er öðru vísi en hjá Ríkisútvarpinu? Vildi menntamálaráðherra gera grein fyrir því? Ætli stöðu Ríkisútvarpsins megi skýra út frá ...
3. Febrúar 2006


...Muna menn umræðuna um mikilvægi þess að efla kostnaðarvitund sjúklinga fyrir hálfum öðrum áratug, á fyrstu árum samstjórnar Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks? Sú umræða var mörgu sjúku fólki erfið, að það væri sérstakt keppikefli að reikna það út kvölds og morgna hver baggi það væri á samfélaginu með það í huga að draga úr heimtufrekju og kröfugerð! Almennt vakti þessi boðskapur úr heilbrigðisráðuneytinu á þessum tíma hörð viðbrögð í samfélaginu.
Ég fæ ekki betur séð en sama hugmyndafræði sé hér uppi á teningnum, að nú þurfi að innræta kostnaðarvitund – að þessu sinni fátækum börnum...2. Febrúar 2006

...

Nafn Guðmundar Magnússonar hefur verið þurrkað út af ritstjórnarsíðu Fréttablaðisins. Eins undarlegt og það kann að hljóma hefur blaðið hins vegar ekki sagt lesendum sínum þá frétt að einn aðalskríbent blaðsins hafi verið rekinn! Ekkert var heldur að sjá um þetta í DV sem hefur sagt frá öðru eins. Þegar farið er að hugsa út í málið, er ekki að sjá að neinn fjölmiðill í eigu 365 miðla hafi sagt fréttina þegar þetta er skrifað! Þessir fjölmiðlar telja sig væntanlega ekki skuldbundna til slíks – eða kannski er það viðhorf ríkjandi á ritstjórnum þessara miðla að fréttir óþægilegar eigendum gætu haft óþægilegar afleiðingar fyrir boðbera slíkra frétta. Það er ágætt að hafa þetta allt á bak við eyrað við umræðuna um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Með henni fær útvarpsstjóri alræðisvald – og þarf þá ekki að standa nokkrum manni skil gerða sinna. Er þetta eftirsóknarvert fyrirkomulag? Eftir stendur að Fréttablaðið verður að gera hreint fyrir sínum dyrum. Fréttamiðill sem rekur gagnrýninn fréttamann skýringarlaust hættir að vera trúverðugur...
2. Febrúar 2006
...Er ekki sennilegast að sumir foreldrar treysti sér einfaldlega ekki til þess að kaupa mataráskrift vegna kostnaðarins? Og hvernig ætlum við að bregðast við því? Finnst okkur ásættanlegt að skipta börnunum okkar í stéttir eftir efnahag strax í grunnskólanum? Þau sem hafa efni á því að borða í mötuneytinu og hin sem hafa það ekki?" Í Morgunblaðinu í dag tekur skólastjóri Fellaskóla undir þessi sjónarmið og telur líkur á að töluverður hluti barna í borginni fari á mis við mat í skólanum vegna fátæktar. Afstaða Vinstri grænna í Reykjavík er skýr í þessu máli. Við viljum útrýma gjaldtökunni í grunnskólanum, þ.m.t. matarkostnaðinum. Í lok fyrrnefndrar greinar...
1. Febrúar 2006
Í pistli hér á síðunni í gær lauk ég lofsorði á Staksteinahöfund Morgunblaðsins fyrir ágæta hugvekju frá síðasta sunnudegi. Ekki er efni til að endurtaka lof og prís vegna Staksteinapistils frá í dag. Umræðuefnið er andstaða Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs við stjórnarfrumvarp, sem auðveldar Valgerði álráðherra og félögum hennar í ríkisstjórn að veita heimildir til að rannsaka virkjunarkosti svo svara megi orkuþörf þeirra stóriðjufyrirtækja sem lokkuð hafa verið til landsins með kostaboðum um lágt orkuverð og þæg og undirgefin stjórnvöld...Annars vegar er um að ræða meirihluta, sem getur keyrt sitt í gegn í krafti yfirburðastöðu sinnar, hins vegar er það minnihluti sem reynir að breyta gangi mála. Morgunblaðið segist sammála minnihlutanum í þessu máli, Vinstrihreyfingunni grænu framboði, en biður flokkinn jafnframt um að þegja. Hvað segir þetta okkur um sannfæringu Morgunblaðsins í þessu máli? Mér finnst þessi afstaða jaðra við tvískinnung. Staksteinahöfundur staldrar ekki við til að spyrja hvers vegna alþingismaður flytji vandaða og tilfinningaþrungna ræða í fimm klukkustundir. Staksteinahöfundur gerir þetta að umræðuefni, að því er virðist, til þess eins að ...
31. Janúar 2006
...Ef það er rétt að Björn Ingi hjá Framsókn hér í Reykjavík hafi eytt a.m.k. 10 milljónum í prófkjörið sitt þó hann segi bara 5, þá hljóta einhverjir að hafa látið hann fá miklar fúlgur. Nema auðvitað hann sé auðmaður sjálfur og þá kemur upp spurninginn hvort menn þurfi orðið að vera moldríkir til að komast að í stjórnmálum á Íslandi. Annað finnst mér vera áberandi og það er hvað margir af kandidötunum í hinum ýmsu prófkjörum eru líkar týpur. Þetta er sérstaklega áberandi með nýju karlana hjá Íhaldinu, Framsókn og Samfylkingunni. Þeir eru einhvernveginn allir bakaðir eftir sömu uppskriftinni, svona frekar uppskafningslegir framagosar og miklir auglýsingamenn. Ég á við þessa menn eins og Gísla Martein, Björn Inga, Dag B. Eggertsson og Stefán J. Hafstein. Þetta eru sjálfsagt allt ágætismenn en hvort þeir eru sú tegund sem mest vantar í ...
31. Janúar 2006

...Tilefni þessara skrifa minna eru Staksteinar Morgun-
blaðsins síðastliðinn sunnudag. Ekki skrifa ég upp á hvert orð pistilsins. En vitiborinn er hann að mínu mati, ber vott um víðsýni höfundar og er ég, þegar á heildina er litið, boðskapnum hjartanlega sammála. Í þeirri afstöðu sem birtist í þessum Staksteinapistli er að finna lykilinn að friðsamlegri sambúð. Með aðferðafræði suður-afríska biskupsins Desmonds Tutu í ofanálag mætti síðan komast upp úr skotgröfunum. Þjóð Tutus hins blakka biskups hafði verið kúguð, pyntuð, rænd og fangelsuð um áratugi af valdhöfum og handbendum þeirra. Þegar svo kúgararnir gáfust upp, þá setti...
30. Janúar 2006
...Þetta studdu Samfylking og Frjálslyndir og fengu að heyra orð í eyra frá ykkur á Alþingi í dag. Ekki orð um það í fréttum kvöldsins. Eru fréttamenn RÚV ekki í vinnunni eða eru þeir kannski allir í Samfylkingunni, það er að segja þeir sem ekki eru ráðnir af Heimdalli og Vöku? Hvers vegna fáum við ekki að heyra raunverulegar fréttir í "útvarpi allra landsmanna?" Ég verð að segja Ögmundur, að alveg er að undra að þú skulir nenna að verja þetta íhaldsútvarp og sjónvarp. Látum það gossa og hættum að borga afnotagjöldin. Ég er blanda af gömlum Alþýðuflokks/komma. Ég hef fram til þessa stutt Ríkisútvarpið af heilum hug. Sú tíð er liðin – eða er að líða. Þess vegna segi ég – leyfum Þorgerði Katrínu að veita náðarhöggið....
30. Janúar 2006
...Nú ættum við hins vegar að bíða þar til niðurstaða kæmi úr viðræðum um stækkun í Straumsvík. Það vildi Sigríður Anna, umhverfisráðherra. Það vildi Ál-Valgerður hins vegar ekki. Hún vildi ekki bíða. Þá varð þessi vísa til innan þings:
Hún er ekki á þeim buxum að bíða,
bráðlát í stóriðjuframkvæmdir núna.
Ögmundi má lengi undan því svíða,
að ekkert hrín á álversfrúna.
Einn innan þings
29. Janúar 2006
Birtist í Morgunblaðinu 28.01.06.
...Eftir að RÚV hefur verið gert að hlutafélagi mun birtast frelsandi engill. Það gæti þess vegna verið Morgunblaðið og samstarfsaðilar þess, sem vildu mynda mótvægi við Stöð tvö. Boðið yrði upp á einhverja milljarða inn í rekstur RÚV hf, að sjálfsögðu gegn eignaraðild. Hver myndi standa gegn tilboði um myndarlega hlutafjáraukningu í RÚV hf? Hver yrði því andvígur að fá aukið fjármagn til að efla og bæta dagskrána? Myndi útvarpsstjórinn fúlsa við slíku? Eða menntamálaráðherrann? Og hvað með okkur hin, væri þetta ekki fjári góð hugmynd? - að öðru leyti en því náttúrlega, að Ríkisútvarpið væri þá hætt að vera Ríkisútvarp heldur...
29. Janúar 2006
Sigurvegarinn í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík kom fram í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Ekkert nema gott um það að segja. Mikilvægt er hins vegar að Sjónvarpið láti eitt yfir alla ganga í þessu efni. Ekki minnist ég þess að Svandís Svavarsdóttir oddvita Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík hafi verið boðið til slíks viðtals í Kastljósinu. Ég nefni þetta ekki einvörðungu af umhyggju fyrir VG heldur einnig af umhyggju fyrir Ríkisútvarpinu. Það er ekki ennþá...
Haffi
28. Janúar 2006
...Nú eru það framsóknarmenn sem berjast sín í milli. "Hestamenn, kjósið Bergsson", ómar á öldum ljósvakans kvölds og morgna og samsvarandi má heyra frá öðrum kandídötum: Þeir sem vilja umferðaröryggi, fylkið ykkur um Önnu Kristins. Og síðan er það Björn Ingi, sem hvarvetna blasir við, hvort sem er á auglýsingasíðum eða netmiðlum. Sá maður virðist hafa peningavaldið á bak við sig. Nýlega var hann sakaður um að gefa unglingum bjór og áfengi á kosningaskrifstofu sinni. Össur Skarphéðinsson segir á heimasíðu að þarna sé á ferðinni ómerkileg árás á Björn Inga og Hrafn Jökulsson tekur undir með Össuri í hvassyrtri blaðagrein. Ég virði það við þá félaga Össur og Hrafn að...
28. Janúar 2006
Aldrei þessu vant fylgdist ég með sjónvarpsútsendingu frá Alþingi á föstudagskvöld og fram í nóttina. Þið í VG stóðuð eins og fyrri daginn ein vaktina í umræðunni um umhverfismálin. Dapurlegt var að sjá Samfylkinguna og Frjálslynda heltast úr lestinni og meira að segja greiða atkvæði með ríkisstjórninni um að flýta málinu! Hvílíkur vesaldómur. Ekki veit ég hve lengi Jón Bjarnason talaði en án efa flutti hann eina lengstu ræðu þingsögunnar þetta kvöld. Það undarlega var þó að mér fannst ...
Sunna Sara
27. Janúar 2006
Reykvíkingar athugið! Í kvöld milli kl. 20-22 verður efnt til málverkauppboðs í Egilshöll til stuðnings framboði Björns Inga Hrafnssonar. Boðin verða upp tíu ómáluð verk eftir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Sérstakir boðsgestir verða fulltrúar Landsbankans og KB banka. Hvað gera þeir góðu gestir í kvöld? Borga þeir í sömu mynt og þegar ríkisstjórnin “seldi” þeim bankana, eða borga þeir í evrum? Er ekki kominn tími til að Landsbankamenn efli listaverkasafnið sem ríkisstjórnin gleymdi að gera ráð fyrir við bankasöluna? Og hvað gera KB bræður, þeir ...
Stuðningsmannanefndin
26. Janúar 2006
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir hefi ég ekkert látið til mín taka hér í lesendahorninu á liðnum mánuðum. Er þar almennu heilsuleysi, nefnilega magaverkjum, hlustarverk í hægra eyra og eins liðverkjum í griplimum, um að kenna - og hefir allt þetta vesen hamlað mér frá skriftum og öðru verklegu stússi. En nú er að duga eða drepast fyrir minn gamla vin og fermingarbróður...
Þjóðólfur
26. Janúar 2006
Á Alþingi í dag var til umræðu frumvarp ríkisstjórnarinnar um rannsóknir á auðlindum í jörðu. Þetta er hitamál sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur beitt sér mjög gegn en iðnaðarráðherra hefur að sama skapi hamast fyrir samþykkt þess. Ágreiningurinn snýst um eftirfarandi grundvallaratriði: Ráðherrann vill fá heimild til að úthluta rannsóknarleyfum til virkjunarþyrstra orkufyrirtækja en VG vill á hinn bóginn að nú verði stopp sett á frekari áform í þágu erlendra álfyrirtækja sem bíða í röðum eftir að fá að versla við lítilþægustu ríkisstjórn í Evrópu ... Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er því vanur að standa náttúruvaktina einn innan veggja Alþingis – það gerðum við í Kárahnjúkadeilunni og í deilunni um Þjórsárver - og verður svo í þessu máli. Dagurinn var eins og flestir dagar að mörgu leyti ágætur – en hann varð án Samfylkingarinnar þegar á hann leið og nú ...
25. Janúar 2006
Ég vil minna alla Reykvíkinga á prófkjör okkar framsóknarmanna vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Prófkjörið sjálft fer fram í Skautahöllinni í Laugardal núna á laugardaginn, 28. janúar...Aðgangur á báða staðina er ókeypis, veitingar sömuleiðis, varningur ýmis og skemmtanir. Það verður heitt á könnunni og freyðandi bjór á krananum. Þá verður dreift sérdeilis fallegum barmmerkjum og níðsterkum verjum, sérmerktum flokknum, og er þá aðeins fátt eitt nefnt...
Jón Ásbjörnsson,
class=MsoNormal style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt">bóndi, Rauðará class=MsoNormal style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt">
25. Janúar 2006

...Ef ekki ætti í hlut voldugasta ríki heimsins hefði fyrir löngu komið til tals að slíta stjórnmála-
sambandi við það! Ekkert væri fjær íslensku ríkisstjórninni. Gagnvart Bandaríkjastjórn kann hún best við sig á hnjánum. Þegar ríkisstjórnin var knúin til þess að
"mótmæla" framferði Bandaríkjamanna vorið 2004 var það gert svo mildilega að ekki nokkur maður tók eftir því. Þetta hafa síðan verið kölluð mótmæli í kyrrþey. Í stað þess að afneita staðreyndum um framferði Bandaríkjamanna á ríkisstjórn Íslands nú að hafa manndóm í sér til að...
24. Janúar 2006
Getur verið að fjölmiðlar hafi ekki almennilega kveikt á perunni, nefnilega að Álfheiður Ingadóttir, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í stjórn Landsvirkjunar, greiddi ein atkvæði gegn tillögu um að hafnar skyldu viðræður við Alcan um orkusölu til stækkunar álversins í Straumsvík í 460 þúsund tonna framleiðslu á ári? Sannast sagna kann ég ekki aðra skýringu á sinnuleysi þeirra um afstöðu fulltrúa VG í Landsvirkjun. Ef til vill horfir þetta til bóta því í dag sendi þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs frá sér ályktun um "stækkunarviðræðurnar" ásamt bókun Álfheiðar Ingadóttur, en bókun hennar er svohljóðandi...
21. Janúar 2006
Birtist í Morgunblaðinu 20.01.06.
...Í ofanálag geirneglir stjórnarfrumvarpið pólitískt meirihlutavald yfir stofnuninni – endurspeglun á stjórnarmeirihlutann hverju sinni! Það er ekki að undra að þeim fjölgi sem leggjast gegn frumvarpi menntamálaráðherra um hlutafélagavæðingu RÚV. Þeir sem leggjast gegn því er sama fólkið og hefur lesið frumvarpið og jafnframt kynnt sér aðra valkosti sem bjóðast til að bæta rekstrarskilyrði Ríkisútvarpsins. Það segir...
20. Janúar 2006

Baráttan byrjar með mismunandi hætti hjá flokkunum í Reykjavík. VG valdi sína frambjóðendur í forvali þegar í haust og var gengið frá listanum í heild nú í byrjun mánaðarins. Nú stendur hins vegar yfir mikil auglýsingaveisla áróðursfyrirtækja og fjölmiðla þar sem
"miðjuflokkarnir", Framsókn og Samfylking velja fólk til að leiða sína lista. Þau sem greiðastan aðgang hafa að fjármagni fá mesta kynningu meðan almennir flokksmenn eiga litla sem enga möguleika. VG stendur ekki í slíku heldur boðar til opinnar ráðstefnu um borgarmál...
20. Janúar 2006
...Þá hef ég áhyggjur af því að venjulegt vinnandi fólk geti ekki boðið sig fram til starfa í sveitarstjórnum. Ég heyrði um konu í Kópavogi sem ætlar að bjóða sig fram í 4. sæti í sínum flokki en er búin að láta prenta bækling og opna skrifstofu. Er ekki hægt að stoppa þetta eða semja um einhver skynsamleg takmörk?
Fjóla
19. Janúar 2006

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður og sjávarútvegsráðherra, minnir svolítið á pólitískan brennuvarg þessa dagana. Hann skrifar pistil á heimasíðu sína í dag þar sem hann reynir allt hvað hann getur að spilla því ágæta samstarfi sem er á milli stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi. Hann reynir að finna dæmi þar sem flokkarnir veitist hver að öðrum og er harla hróðugur þegar honum finnst það takast. Hann gleðst eins og brennuvargur við eldsvoða. Staðreyndin er hins vegar sú að á sama tíma og logar stafna á milli á ríkisstjórnarskútunni fer fram gott og málefnalegt samstarf á milli stjórnarandstöðuflokkanna, VG, Frjálslyndra og Samfylkingar. Margt eiga þessir flokkar sameiginlegt og við höfum það jafnan í huga. Að sjálfsögðu horfum við af raunsæi einnig til þess að málefnalegur ágreiningur er á milli þeirra á ýmsum sviðum...
18. Janúar 2006
...Friðrik Sophusson gerði því skóna í útvarpsviðtalinu í morgun að þetta skýrði viðsnúning Samfylkingarinnar varðandi Norðlingaölduveitu. Í útvarpsviðtalinu sagði hann að ástæða þess að meirihlutinn í Reykjavík snérist nú gegn þessari framkvæmd sé ótvíræður vilji borgarbúa í þessum efnum. Orðrétt sagði forstjóri Landsvirkjunar: "...þessi niðurstaða borgarinnar og þá sérstaklega meirihlutans sýnir að það eru kosningar í nánd og að það eru að koma prófkjör..." Ef þetta er rétt, þá bið ég um ...Reyndar er sérkennilegt að fylgjast með tungutaki þeirra Landsvirkjunarmanna þessa dagana. Nú er allri umræðu um virkjanir og orkumál snúið upp í þröngt fyrirtækjatal. Það eru sagðir "óeðlilegir hagsmunaárekstarar" að sami aðili, þ.e. Reykjavíkurborg...
17. Janúar 2006
Það á ekki af DV að ganga. Tveir ritstjórar segja af sér vegna mótmæla í landinu út af stefnu þeirra við ritstjórn blaðsins. Nýir ritstjórar eru ráðnir. Og hvað gerist? Nýr skandall! Annar hinna nýráðnu ritstjóra, Björgvin Guðmundsson, reynist vera svo hægri sinnaður að áskrifendur blaðsins spyrja sjálfa sig hvort þeir séu staddir á málfundi hjá Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna, þegar þeir lesa ritstjórnarpistla hans. Leiðarinn í dag ber yfirskriftina...
14. Janúar 2006
Á forsíðu fimmtudagsútgáfu Fréttablaðsins var okkur sagt frá því að eignir Símans hafi þrefaldast eftir söluna frá í sumar „í höndum nýrra eigenda.“ Við vitum að sjálfsögðu sem er, að fyrirtækið hefur ekki tekið nein slík stökk fram á við. Það er einvörðungu braskgildið sem hefur vaxið. Okkur er sagt frá nýjum skuldum fyrirtækisins og að skuldaaukningin nemi tugmilljörðum. En að sama skapi hafi verið braskað af miklum krafti og sé niðurstaðan sem sé þreföldun eigna.
12. Janúar 2006
Morgunblaðið gerir að umfjöllunarefni skrif mín hér á síðunni um svokallaða Rannsóknamiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, RSE. Ég vakti athygli á þeim aðilum, sem að miðstöðinni standa en þeir eru flestir, ef ekki allir, af frjálshyggjuvæng stjórnmálanna, enda er markmið Rannsóknamiðstöðvarinnar að: „efla skilning og mikilvægi frjálsra viðskipta og eignaréttinda…“ Á vegum þessarar stofnunar var nýlega birt skýrsla um Ísland og alþjóðaviðskipti og vakti ég athygli á því að þar hefðu höfundar lýst því blákalt yfir að skýrslan væri skrifuð í því augnamiði að „tíunda kosti alþjóðaviðskipta…“ Þetta sagði ég að virtist ekki vera sérlega fræðileg nálgun.
11. Janúar 2006

Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Olíufélagsins kom fram í sjónvarpsfréttum í gær til að leggja áherslu á siðferði í viðskiptum. Til stendur að eigendur Olíufélagsins, en þar er hann sjálfur fyrirferðarmestur, selji félagið en slíkt megi alls ekki gerast, segir Ólafur, í
"reykmettuðum bakherbergjum". Nú veit ég ekki hvort Ólafur Ólafsson er reykingamaður en hitt veit ég að sjálfur hefur hann notið góðs af baktjaldamakki Framsóknarflokksins á undanförum árum. Sjálfur er hann þar í innsta hring og naut gjafmildi þeirra Halldórs, flokksformanns og Valgerðar, viðskiptaráðherra þegar þau gáfu Búnaðarbankann.- eða til að vera nákvæmari,
"seldu" hann á gjafprís. Í kjölfarið hafa njótendur þessa pólitíska örlætis makað krókinn ótæpilega. Það er varla nema fyrir innvígða að fylgjast með ferli fjármálabrasksins en eftirfarandi ...
11. Janúar 2006
Mikið fjaðrafok hefur verið í samfélaginu allt frá því út spurðist um tvo starfslokasamninga og laun forstjóra FL-Group. Helstu strigakjaftar stjórnarandstöðunnar hafa haft uppi hávær öskur um sjúklega græðgi, græðgis- og gróðapungavæðingu, almenningur hefur tjúttað með, menningarvitar hafa tjáð sig um meint gírugheit íslenskra athafnamanna og þóst geta kennt þeim lífsins gildi og gæði með alls kyns ráðum; til að mynda að betra sé að éta eina appelsínu í einu í stað þess að reyna að torga heilu tonni í einum bita. Málflutningurinn allur hefur einkennst af öfund, útúrsnúningum, að ekki sé talað um þekkingarleysi, og svo þung hefur undiraldan verið að jafnvel sumir ráðamenn landsins hafa neyðst til að taka ...
Jón Ólafsson frá Bisnesi
10. Janúar 2006

Að undanförnu hefur talsvert verið fjallað um nýútkomna skýrslu eftir hagfræðingana
Tryggva Þór Herbertsson, Halldór Benjamín Þorbergsson og Rósu Björk Sveinsdóttur, sem ber heitið
Ísland og alþjóðaviðskipti. Þar lýsa skýrsluhöfundar því blákalt yfir að
“ritgerðin” sé
“skrifuð til að tíunda kosti alþjóðaviðskipta...” Þetta getur varla flokkast sem sannfærandi fræðileg nálgun á viðfangsefnið sem einkum og sérílagi tekur til verslunar á sviði landbúnaðarafurða. Auðvitað er það kostur að menn tali tæpitungulaust um hlutina ef þeir á annað borð vilja gerast pólitískir. Og ekki verða skýrsluhöfundar ásakaðir fyrir að reyna að villa á sér heimildir. Á afdráttarlausari hátt verður varla lýst yfir aðdáun á hægrihyggju en gert er í þessum formálsorðum skýrslunnar:
„Undanfarinn áratug hefur Ísland siglt hraðbyri í frjálsræðisátt. Fjármagnsflutningar hafa verið gefnir frjálsir, skikki komið á ríkisfjármálin og skuldir greiddar, ríkisfyrirtæki einkavædd, skattar á fyrirtæki lækkaðir og rammi hagstjórnar er orðinn eins og best verður á kosið. Á minnsta kosti einu sviði hefði þó mátt ganga hraðar fram – á vettvangi alþjóðaviðskipta.“ 10. Janúar 2006
...Ég vildi benda þér á frétt í Fréttablaðinu 5. janúar og gera athugasemd við hana: Í fréttinni segir: "Eftirlaunafrumvarpið varð umdeilt og þá sérstaklega sú staðreynd að ráðherrar og þingmenn gætu hafið töku eftirlauna þó að þeir væru í fullu starfi hjá hinu opinbera." Þetta er röng fullyrðing. Andstaðan við eftirlaunafrumvarpið kom þessari svívirðu ekkert við, enda var hún ekki hluti frumvarpsins heldur laga sem hefði þurft að breyta um leið og hin nýju forréttindi þingmanna voru lögfest, 15. desember 2003. Það "gleymdist" hins vegar í flýtinum og leynimakkinu og varð ekki opinbert fyrr en í ársbyrjun 2005. Megn andstaða við eftirlaunafrumvarpið var vakin vegna þess að...
Hjörtur Hjartarson
9. Janúar 2006
Í Fréttablaðinu í gær furða menn sig á áherslum
BSRB varðandi Doha-viðræðurnar svokölluðu, sem fram fara á vegum
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO...Út á hvað ganga þessar ályktanir samtaka launafólks? Tvennt er gagnrýnt.
Í fyrsta lagi sú leynd sem hvílt hefur yfir samningaviðræðunum og ólýðræðsileg vinnubrögð...
Í öðru lagi eru samningsforsendurnar gagnrýndar... Fréttablaðið gerir að sínum orð
Ýmis Arnar Finnbogasonar, eins af pistlahöfundum
deiglunnar.com, sem er vefrit frjálshyggjumanna þar sem hann beinir gagnrýni ...Ég tók reyndar þátt í mjög skemmtilegri umræðu um þetta efni með ágætum deiglupenna,
Halldóri Benjamín Þorbergssyni, í síðustu viku á fundi sem
Samband ungra sjálfstæðismanna, SUS, boðaði til...
9. Janúar 2006
...Til þess að fagna þessu og áramótunum bauð ég ýmsum merkismönnum með hjartað vinstrameginn til veislu.. Á boðstólum var hangikjét, uppstúfur, öl og brennivín. Rífandi stemming var í samkvæminu, enda voru það ekki ómerkari menn en Bítlarnir og Rollingarnir sem léku og sungu fyrir dansi ásamt fjölda annara öflugra listamanna. Græjurnar hans Svenna á Grund klikkuðu ekki og eftir veisluna svaf hver hjá öðrum, án eftirmála. Okkur hér á Snotru fannst lítið til um þá frétt að Tom Jones hefði sungið nokkur lög í veislu íslenskra auðjörfa í höll í London, jafnvel þótt ...
Runki frá Snotru
8. Janúar 2006
...þáttastjórnandinn Egill sá sér leik á borði til að magna farsann. Pistlahöfundurinn á Blaðinu, sem að eigin sögn hrífst mikið af Staksteinum fyrir stíl og andagift, Kolbrún þessi, virðist haldin undarlegri þráhyggju, hana dreymir að fyrrum vistmaður á dvalarheimili aldraðra stjórnmálamanna, utanríkisþjónustunni, gangi aftur í endurnýjaða pólitíska lífdaga. Þessi sérkennilegu skrif Staksteina virðast hafa sett formann Samfylkingarinnar jafnvel enn meira út af laginu, þar sem hún er byrjuð að slá úr og í í kvótaumræðunni. Þetta kemur m.a. fram í því að hún talar svo óskýrt að hún hefur ekki við að leiðrétta sjálfa sig. Er þetta það sem Mbl á við með því að...
Sigurður
7. Janúar 2006
...Ég lái ekki þáttastjórnanda í Kastljósi fyrir að þakka ráðherra fyrir komuna og reyna að ljúka þættinum, eða var það ef til vill eftir yfirlýsingar hennar um hve æskilegir vinnustaðir álver væru fyrir æsku landsins í framtíðnni, sem þáttastjórnandinn ákvað að slíta samtalinu? Synd að Valgerður Sverrisdóttir, náttúruverndarsinninn að eigin sögn, skyldi ekki vera á tónleikunum í kvöld. Ég held að það væri æskilegt að ráðherrar tækju til umfjöllunar á að minnsta kosti einum ríkisstjórnarfundi spurninguna um hvort verið gæti að ríkisstjórnin sé á góðri leið með að verða náttúrulaus. Sennilega væri þó markvissara að spurt yrði hvort ríkisstjórnin væri að...
6. Janúar 2006
Valgerður Sverrisdóttir kom fram á Morgunvakt RÚV í morgun til að fjalla um launagjána sem myndast hefur í íslensku samfélagi. Í viðtalinu kom margt athyglisvert fram og sumt vægast sagt furðulegt. Ráðherrann reynir að þvo hendur ríkisstjórnarinnar af öllu því sem er að gerast.
Valgerður Sverrisdóttir segir að stjórnvöld geti ekki haft áhrif á launakjörin í landinu, einvörðungu sett
almenn lagaákvæði sem lúta að kjaraumhverfinu. Þetta er að vísu ekki rétt því ríkið semur við starfsmenn sína og eins og fram hefur komið í opinberri umræðu hafa samningar þeirra sem hærri hafa launin hækkað meira en hinna sem eru á lægri launum. Ummæli Valgerðar Sverrisdóttur gefa líka tilefni til að skoða þau lagaákvæði sem ráðherrann vísar í og lúta að kjaramálum. Þegar dæmið er gert upp lítur það svona út...
5. Janúar 2006
Kaumpánarinir Halldór og Davíð geta senn fagnað þriggja ára stríðshelvíti í Írak-þeirrI atlögu gegn þróunarríki sem þeir staðfastir studdu fyrir hönd okkar Íslendinga. Enn situr Halldór Ásgrímsson í ráðherrasæti en hefur þó viðurkennt að hluta til villur síns vegar varðandi Írak. Þrátt fyrir andmæli og viðvaranir víða að, átti Halldór á sínum tíma ríkan þátt í að móta opinbera íslenska stjórnarstefnu á grunni upploginna CIA gagna, árásargjarnrar græðgisstefnu bandarísku haukanna. Hann axlaði þá mikla ábyrgð, braut trúnað við þjóð sína og gerði Ísland að bakhjarli stríðsglæfra. Halldór vill síst líta um öxl nú en hvetur okkur landa sína til að horfa til birtunnar, sem við blasir í Írak að því er hann telur. Allra síst er hann líklegur til að viðurkenna siðferðishrun sitt og þeirra félaga sinna, sem hann enn bindur trúss við, þá sem færðu Írökum eld og brennistein. Fátt fæst enn upplýst um...
4. Janúar 2006
Í byrjun vikunnar birtut í Morgunblaðinu ýmsar áramótahugleiðingar, þar á meðal þeirra Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, og Helgu Hansdóttur yfirlæknis í almennum öldrunarlækningum LSH, Landakoti. Bæði viku þau að stöðu aldraðra...Allir þeir sem muna feril þeirra nefnda sem ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa sett á laggirnar um kjör aldraðra allar götur frá því þessir flokkar hófu samstarf vorið 1995 hljóta að hugsa sitt...Helga Hansdóttir skrifar mjög umhugsunarverða grein undir fyrirsögninni: Áramótahugleiðing um þjónustu heilbrigðiskerfisins við aldraða. Hún segir að...