Beint á leiðarkerfi vefsins

31. Desember 2005

ÞÖRF Á MEIRI UMFJÖLLUN UM UMHVERFISMÁL

...Mér finnst margt af því sem þú tekur til umræðu hér á síðunni athyglisvert en mér finnst þó áberandi að umfjöllun um umhverfismál er allt of lítil. Nú ert þú þingflokksformaður flokks sem kennir sig við græna litinn sem þýðir að umfjöllun þarf að hafa meira vægi hjá öllum þingmönnum flokksins ekki bara Kolbrúnu og Þuríði. Þið hjá vinstri grænum þurfið að vera mun meira vakandi gagnvart ýmsu sem lítur að umhverfismálum og leggja meiri áherslu á þennan málaflokk annars er tómt mál að tala um grænan flokk...
Jakob

29. Desember 2005

RÍKISSTJÓRNINNI BER AÐ KVEÐJA ALÞINGI SAMAN ÞEGAR Í STAÐ

...Nú er ég í hópi þeirra sem tók eindregið undir með forsætisráðherra er hann ritaði Kjaradómi og bað hann um að endurskoða ákvörðun sína. Frá þessari afstöðu hef ég ekki hvikað þrátt fyrir efasemdir víðs vegar að í þjóðfélaginu um að þetta hafi ekki verið réttmætt. Í þessu sambandi hefur einkum tvennt verið sagt. Í fyrsta lagi að Kjaradómur sé dómstóll og rangt af framkvæmdavaldinu að reyna að hlutast til um ákvarðanir hans. Í öðru lagi geti Kjaradómur ekki breytt ákvörðunum sínum að óbreyttum lögum. Þessu er ég ósammála...Hvaða störf eru sambærileg? Hvað er sambærileg ábyrgð? Á hvaða forsendum á að bera saman ábyrgð bankastjóra og ráðherra, strætisvagnastjóra og alþingismanns, biskups og kennara, sjúkraliða og dómara? ... Hvor ber meiri ábyrgð, heilaskurðlæknir á sjúkrahúsi eða matráðskonan á sjúkrahúsinu? Einn maður liggur undir hníf læknisins, matráðskonan getur hins vegar drepið allan spítalann ef hún gerir alvarleg mistök. Er hennar ábyrgð þá meiri...? 

23. Desember 2005

BURT MEÐ KJARADÓM ! - GEÐFELLT, SAGÐI ÞÁVERANDI FORSÆTISRÁÐHERRA

...Það sem hins vegar er slæmt er að þeir sem stýra för í þjóðfélaginu, stjórnvöld og atvinnurekendur, hafi engan vilja á því að stefna í átt til jöfnuðar. Þá aðeins hreyfa þeir sig að lognmollunni sé í voða stefnt! Það má ekki fara upp úr hjólförunum, segja þingmenn Íhaldsins og talsmenn atvinnurekenda. Að máli kom við mig kona sem starfað hefur í fiskvinnslu um langt árabil. Hún sagði að sér yrði óglatt við að hlusta á þennan  mannskap. Svo naumlega skömmtuðu þeir laun úr hnefa að Íslendingar hrökkluðust úr hverri starfsgreininni á fætur annarri, þar á meðal fiskvinnslunni. Íslenska verkafólkið reisti nefnilega þá kröfu að vera þátttakendur í íslensku samfélagi með öllum þeim tilkostnaði sem það hefði í för með sér, blöðunum, bókunum, leikhúsi, tónleikum og bíói – að ógleymdum ferðalögum. Þegar launin hrykkju ekki til væri leitað í önnur störf. Þá væri viðkvæðið af hálfu atvinnurekenda iðulega að Íslendingar vildu ekki vinna þessi störf. Það er alrangt. Hið rétta er að Íslendingar vilja ekki...

22. Desember 2005

HVER BER ÁBYRGÐ Á LAUNAMISRÉTTINU?

...Í fyrsta lagi eru vinnubrögðin forkastanleg...Þannig er þjóðin í þann veginn að hverfa inn í jólin þegar Kjaradómur nú kynnir ákvörðun sína...Þar erum við líka komin að hinni pólitísku ábyrgð. Hún er atvinnurekendanna, sem hækka stjórnendur og hálaunafólk í kjörum bæði í samningum og utan samninga, langt umfram láglauna- og millitekjufólkið. Með undanteknungum hefur þetta verið reyndin undanfarin ár...Það sem ég óttast að muni gerast í kjölfarið er, að reynt verði að setja forstjóralaunin undir huliðshjúp. Með öðrum orðum, til þess að himinhá laun raski ekki ró, eða öllu heldur dragi ekki úr andvaraleysi lágtekju- og meðaltekjufólks, verði kjör hátekjufólksins gerð leynileg. Hvers vegna var til dæmis kveðið sérstaklega á um það í nýgerðum lögum um Fjármálaeftirlitið að laun forstjórans skyldu tekin út úr bæði almennu samningsumhverfi..Hið sama gildir um fleiri stofnanir. Ég gagnrýndi þetta á þingi á sínum tíma við engar undirtektir stjórnarmeirihlutans. Það væri verðugt verkefni fjölmðila að fara í saumana á þessu...

21. Desember 2005

MÁNUDAGUR Í LÍFI IÐNAÐARRÁÐHERRA: HAMINGJUÓSKIR TIL BECHTEL OG SKEMMTILEG KVÖLDSTUND Í BOÐI ALCAN

Að öllu jöfnu hef ég engan áhuga á að fylgjast með lífi Valgerðar Sverrisdóttur. En hún er nú einu sinni iðnaðarráðherra og kemur fram fyrir hönd okkar allra sem slík. Þess vegna er það í sjálfu sér þakkarvert að hún skuli veita okkur innsýn í líf sitt í dagbók sem hún birtir á heimasíðu sinni... Hitt þykir mér vafasamara með hvaða hætti samskiptin eru við álrisana. Þar eru "framtíðaráformin" rædd yfir kvöldverði í boði álrisanna í Perlunni! Eftirfarandi er að finna í dagbók iðnaðarráðherra: "Rannveig Rist og Wolfgang Stiller fulltrúi Alcan buðu mér ásamt ráðuneytisstjóra mínum til kvöldverðarfundar í Perluna.  Við ræddum framtíðaráform Alcan og ýmislegt fleira.  Skemmtileg kvöldstund." Hér er ekkert snakk á kontór ráðherra eins og þegar minni mál hérlendra eru rædd. Þetta var...
Haffi

21. Desember 2005

MÁLEFNI ALDRAÐRA FÁI FORGANG

Birtist í m-á-l-e-f-n-u-m Aldraðra 3.tbl.14.árg.2005
...Málefni aldraðra eru nú í brennidepli sem aldrei fyrr og er það mín tilfinning að skilningur á nauðsyn þess að gripið verði til róttækra aðgerða fari nú vaxandi í þóðfélaginu. Þar kemur margt til...En hvað er það sem komið hefur í ljós í þessari umfjöllun? Í fyrsta lagi erum við minnt á að ekki er hægt að alhæfa um stöðu aldraðra, hvorki í fjárhagslegu tilliti, heilsufarslegu eða hvað lífskjör og aðstæður snertir almennt. Hitt er þó ljóst að margt aldrað fólk býr við afar bágborin kjör. Þannig hefur komið fram að...

20. Desember 2005

RÍKISÚTVARPIÐ 75 ÁRA

...Jón Múli ræddi um menningarlegt hlutverk Ríkisútvarpsins og þar á meðal um varðveisluhlutverkið; í þessari gamalgrónu stofnun hefðu verið varðveittar menningarminjar, sem mikil áhöld væru um að hefðu varðveist ef fallvölt gróðafyrirtæki hefðu haft varðveisluhlutverkið á hendi. Inn á þetta kemur Ólafur Páll Gunnarsson, hinn kunni útvarpsmaður á Rás 2 – umsjónarmaður Rokklands með meiru – í aldeilis stórgóðu viðtali í nýútkomnu Stúdentablaði. Málflutningur Ólafs Páls sver sig rækilega í ætt við þær hefðir sem gert hafa Ríkisútvarpið að stórveldi. Hann sýnir sögunni virðingu en er jafnframt opinn fyrir nýjum tímum, víðsýnn og vill nema ný lönd...

18. Desember 2005

TILLAGA UM EFNAHAGSÚRRÆÐI: RÍKISSTJÓRNIN SEGI AF SÉR


...Glæpur þessarar ríkisstjórnar gagnvart íslensku atvinnulífi er mikill. Þau fyrirtæki sem nú er verið að flæma úr landi vegna atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar eiga sér mörg langa uppbyggingarsögu ... Nú þegar Valgerður, ráðherra og ríkisstjórnin, sem ber ábyrgð á öllu því sem úrskeiðis hefur farið, segist vera að hugsa málin, jafnvel ætla að grípa til aðgerða – þá hygg ég að hrollur fari um margan manninn. Vissulega þarf að grípa til ráðstafana en forsenda skynsamlegra ráðstafana í efnahagsmálum er augljós...

18. Desember 2005

BARÓNESSA ÚTI Á ÞEKJU

...Í umræddu Kastljósviðtali sýndi Valerie Amos, barónessa, fram á ýmsar víddir í breskum stjórnmálum. Það var áhugavert og fórst Kristjáni vel úr hendi að ræða við hana. Mér sýndist hann hins vegar verða hálf miður sín undir lokin á viðtalinu þegar viðmælandi hans fór að fabúlera um Íraksstríðið því þar stóð ekki steinn yfir steini. Kristján lét á sér finna að ekki væri hann sáttur en barónessan hélt sínu striki, talaði sig meira að segja upp í talsverðan hita og hélt því fram að engar...

17. Desember 2005

Baldur Andrésson skrifar: SVARTÁLFUR

...CIA eða bandarísk stjórnvöld þræta hreint ekki fyrir réttarbrot, mannrán, leynidýflissur og alþjóðlega leyniflutninga á fólki. Þverrt á móti er slíku lýst sem hrósverðri, opinberri stjórnarframkvæmd í  BNA !  Íslenski svartálfurinn, Björn Bjarnason er í öðrum heimi. Hann  heldur því fram að slík opinber bandarísk stjórnarstefna og framkvæmd hennar sé "ómarktækur orðrómur",sem engra viðbragða krefst. Björn ráðherra vill vera álfurinn á hólnum. En getur svartálfur gengt embætti mannréttindaráðherra á Íslandi ? Getur lýðveldið Ísland staðið meðal þjóða á grunni ...

15. Desember 2005

ERU FRAMSÓKN, SAMFYLKING, FRJÁLSLYNDIR OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR MIÐJUFLOKKAR?

...Mér blöskrar alveg hvernig hægt er að þvæla fram og aftur um hlutina í stjórnmálaumræðunni hér heima án þess að staldra við og spyrja grundvallarspurninganna. Fyrsta spurningin er auðvitað þessi. Er það sem hér er kallað miðja eiginleg "miðja", sem sagt "hlutlaus" afstaða eða mitt á milli meginstrauma hægri og vinstri stefnu? Framsóknarflokkurinn segist sjálfur vera miðjuflokkur og þar með er það bara tekið gott og gilt. En er hann það? Manst þú eftir nokkrum sköpuðum hlut sem sá flokkur hefur gert undanfarin ár sem ekki er meira og minna "hægra" megin við miðju stjórnmálanna eins og þau eru venjulega skilgreint. Samfylkingin undir forustu Ingibjargar Sólrúnar segist nú ætla að slást um miðjufylgið, sem er auðvitað fyndið í sögulegu ljósi því í Samfylkingunni áttu "vinstri" menn að sameinast ekki satt? Það má kannski fara að auglýsa svona eins og í gamla daga "vinstri menn sameinist á miðjunni, nefndin" Frjálslyndir telja sig... miðjuflokk, frjálslyndan miðjuflokk sjálfsagt og svo er Sjálfstæðisflokkurinn undir forustu Geirs sagður vera meira inn á miðjunni. Það er auðvitað undarlegt ástand í einu landi ef allir flokkar nema einn...
S. Pálsson   

15. Desember 2005

ÍSLENSKU HUGVITI BEITT Í BÚLGARÍU

Óli í Olís var kraftmikill maður. Þegar hann keypti Olís á sínum tíma var það talsvert umrætt að hann hefði borgað fyrirtækið með því að skrifa út tékka merktan fyrirtækinu sjálfu eftir að hann gekk frá kaupunum á því. Með öðrum orðum, Olís keypti sig sjálft niður í vasann á nýjum eiganda, sem hér eftir gekk undir nafninu Óli í Olís. Viðskiptablaðið, 14. desember, greinir frá kaupum Björgólfs Thors Björgólfssonar á búlgarska símafélaginu BTC. Verður ekki annað skilið en þessari íslensku aðferðafræði í viðskiptum hafi verið beitt þar. Reyndar hefur íslenska aðferðin verið endurbætt í anda formúlunnar frá kaupum til gjafar. Þegar Búnaðarbankinn var gefinn þurfti ekkert að borga, bara bíða þangað til gróðinn gekk upp í það sem sett var upp fyrir bankann. Þróaðri geta viðskiptin varla orðið, það er að segja fyrir viðskiptavininn. Í Búlgaríu eru þau hins vegar ekki komin alveg svona langt. Þau eru enn á því stigi að...

15. Desember 2005

TOLLVARÐAFÉLAG ÍSLANDS 70 ÁRA


...Í tilefni af afmæli Tollvarðafélags Íslands var efnt til sýningar á ýmsum munum og gögnum úr starfi tollvarða. Sýningin var fróðleg og minnir á hve mikilvægt er að halda til haga minjum frá liðinni tíð. Sýningin byggði á framtaki nokkurra einstaklinga úr röðum tollvarða sem eiga lof skilið fyrir framtakið. Um það hefur verið rætt að stofnað verði minjasafn lögreglunnar og hefur Landssamband lögreglumanna falast eftir gamla fangahúsinu við Skólavörðustíg til slíkra nota. Væri tilvalið að tollverðir fengju inni á sama stað fyrir minjasafn sitt sem nú er kominn myndarlegur vísir að...

14. Desember 2005

WTO VIÐRÆÐURNAR VERÐI STÖÐVAÐAR

BSRB vill að samningaviðræðurnar á vegum Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar verði stöðvaðar þar til samningar hafa tekist um nýjar samningsforsendur og lýðræðislegri og opnari vinnubrögð. Geir H. Haarde utanríkisráðherra, sem nú er staddur í Hong Kong á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar, WTO, barst í dag bréf frá BSRB þar sem þess er krafist að Íslendingar beiti sér í þessa veru en samskonar kröfur hafa nú verið reistar af hálfu verkalýðshreyfingar og félagasamtaka sem beita sér fyrir almannaheill, víðs vegar um heiminn.

14. Desember 2005

HVERS VEGNA ER ELÍASI DAVÍÐSSYNI EKKI SVARAÐ?

Birtist í Morgunblaðinu 13.12.05
...Elías Davíðsson, tónskáld, hefur óskað eftir því að sjá gögnin sem lágu að baki þeirri ákvörðun Íslands að styðja stríðið og ritaði hann utanríkisráðuneytinu bréf þar hann krafðist upplýsinga um þetta efni. Elías hefur jafnframt lagt fram kæru á hendur Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni, fyrrum utanríkisráðherra, fyrir meinta hlutdeild í stríðsglæpum árið 1999. Tilefnið var ákvörðun leiðtogafundar NATÓ í Washington þann 23. apríl 1999 að heimila árásir á fjölmiðla í Serbíu en þann fund sátu þeir báðir og tóku þátt í þeirri ákvörðun...Krafa um að þeir axli þá ábyrgð, rökstyðji gerðir sínar, sýni gögn sem þeir byggðu ákvarðanir sínar á, er ekki eins fjarlæg og áður heldur þvert á móti kemur hún nú upp sem fylgifiskur þessara nýju aðstæðna...

13. Desember 2005

ER EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ BIRTA SÖNNUNARGÖGNIN?

Birtist í Morgunblaðinu 12.12.05
...Nú er það svo að aðalritari NATÓ lýsti því yfir að ríkisstjórnum NATÓ ríkjanna hefðu verið kynnt sönnunargögn um ábyrgð Al Qaeda á árásunum í New York og Washington þann 11. september árið 2001. Á grundvelli þessara gagna samþykkti utanríkisráðherra, fyrir hönd allra Íslendinga, að styðja árásir Bandaríkjanna á Afganistan.
Er ekki kominn tími til þess að Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra geri grein fyrir þeim gögnum sem þessar ákvaraðanir voru byggðar á?

12. Desember 2005

...OG GUÐI ÞAÐ SEM GUÐS ER

...Svo var að sjá að það hefði líka verið á forsendum fyrirtækjanna sem efnt var til helgistundar í Grafarvogskirkju um helgina. Fulltrúar Baugs Group, VÍS og Landsbankans reiddu þar fram fyrir framan altarið milljónatugi til kaupa á orgeli fyrir kirkjuna. “Þegar inn kom settust þeir inn í aðra leikmynd kristninnar kaupsýslumennirnir. Nú settust þeir fyrir fram altarið, þéttir á velli, í afskræmt afbrigði af síðustu kvöldmáltíðinni í gerð Michelangelós og voru allt í senn persónur, leikendur og gerendur í sjálfum kristindómnum og vestrænni menningu. Þeir voru að gefa orgel, eða leggja fram innborgun, það skiptir ekki máli. Presturinn rétti þeim eitthvað sem gat líkst ...

11. Desember 2005

NORSKA RÍKISSTJÓRNIN SÝNIR ÁBYRGÐ Í GATS VIÐRÆÐUM!

Á föstudag skýrði utanríkisráðherra Noregs, norska þinginu frá því að ríkisstjórnin hefði ákveðið að draga til baka allar kröfur sem hún hefði áður reist á hendur vanþróuðum ríkjum ( Least Developed Countries, LDC) í GATS viðræðunum. Þetta gerir norska stjórnin áður en ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO hefst í Hong Kong á þriðjudag...Fyrir sitt leyti segja talsmenn þróunarríkjanna að vissulega sé vandi þeirra mikill. Varasamt sé þó að einblína á vanda þróunarríkjanna. Það séu ekki síður hinn ríkari hluti heimsins sem eigi í vandræðum. Hann framleiði einfaldlega of mikið og þarfnist nú nýrra markaða fyrir vörur sínar og þjónustu til þess að geta viðhaldið gróðanum og aukið hann. Ef hins vegar eitthvert jafnræði eigi að komast á verði þróunarríkin að fá ...

11. Desember 2005

HVER ER ÍSKARÍOT?

Ég sá í sjónvarpinu nokkra menn, þétta á velli, ganga inn kirkjugólf í Grafarvogi. Þar sem þeir röltu inn í helgidóminn drúptu þeir höfði eins og í lotningu, eða var þetta teikn að ofan, merki um hversu mjög mennirnir voru bugaðir, eða kannski auðmjúkir. Eða upplifðu þeir sig eins Jesú Krist í allt öðrum göngutúr. Þyrnikórónan var geislabaugur, eins og á sunnudagskólamyndum hvítasunnumanna, og álútir voru þeir, kannski vegna alls hagnaðarins sem þeir í skjóli fákeppni, einkavæðingar og skattalaga, sem breytt var í þeirra þágu á Alþingi, beygir þann sem ætti að brotna. Voru þeir kannski að leika Krist þessir menn í kompaníi við kirkjuna sem kennir sig við gröf? Kannski voru þeir að reyna að toppa symfóníuna, forsetann og KB banka sem buðu upp á einkasamkvæmi með söngvara. Manni er nú farið að detta í hug hvort gerist á undan að forsetinn fær sér nýja þjóð eða þjóðin nýjan forseta. Víst er að hann er að...
Ólína

11. Desember 2005

GATS SAMNINGARNIR VERÐI STÖÐVAÐIR

Birtist í Morgunblaðinu 10.12.05.
...Af þessum sökum er nú sett fram tvíþætt krafa af hálfu fjölda verkalýðsfélaga og heimssambanda þeirra, þar á meðal BSRB og PSI. 
Í fyrsta lagi verði öllum frekari viðræðum á vettvangi WTO frestað og reynt að ná víðtæku samkomulagi við verkalýðshreyfingu og almannasamtök um nýjar samningsforsendur. Í öðru lagi verði framkvæmt mat  á félagslegum, umhverfislegum og menningarlegum afleiðingum þess regluverks í alþjóðaviðskiptum sem hannað hefur verið af fjölþjóðastofnunum á borð við WTO og ríkisstjórnir hafa undirgengist.
Verkalýðsfélög um heim allan hafa sammælst um að koma þessum kröfum á framfæri...

9. Desember 2005

ENN OG AFTUR UM VATN – OG NOKKUR ORÐ UM CHE OG PINOCHET

Fyrir fáeinum dögum brást ég hér á heimasíðunni við skrifum Birgis Tjörva Péturssonar í Viðskiptablaðinu um vitundarvakningu sem samtök launafólks og ýmis almannasamtök hafa efnt til um miklivægi vatns og að aðgangur að því verði viðurkenndur sem mannréttindi (sjá HÉR).  Aftur skrifar Birgir Tjörvi í Viðskipblaðið í dag. Hann ítrekar fyrri afstöðu sína að þessar áherslur hljóti fremur að eiga við um fátæk lönd þar sem vatnsskortur er en hér hjá okkur sem búum við nægt vatn. Hann segir jafnframt að enda þótt einkavæðing hafi í einhverjum tilvikum mistekist, þá sé það ekki vegna þess að einkavæðingin sjálf sé slæm: " Það liggur ekkert fyrir um að í þeim tilvikum  sé orsakanna að leita í þeirri grunnhugmynd að einkaaðilar hafi eignarrétt og einkaframtakinu sé leyft að njóta sín við nýtingu og dreifingu vatns . Þær grunnhugmyndir eru tvímælalaust það sem framtíðin ber ...

9. Desember 2005

EINKAVÆTT RAFMAGNSEFTIRLIT Í VERKI?

Það sló út hjá ykkur rafmagninu í þinginu í vikunni. Hvernig væri að spyrja Valgerði, iðnaðarráðherra  um úttekt á rafkerfi Alþingishússins,  hvort ekki sé munur að hafa nú "eðlilegt" rafmagnseftirlit í landinu, eftir að það var markaðasvætt. Staðreyndin er sú að rafmagnseftirlit í landinu hefur verið í lamasessi eftir að Framsóknarflokkurinn fór um það einkavæðingarhöndum og kemur vel á vondan að Alþingi skuli með þessum hætti vera minnt á nauðsyn þess að búa við gott rafmagnseftirlit.
Fyrrverandi starfsmaður rafmagnseftirlitsins.

8. Desember 2005

ÓVÆGIN GAGNRÝNI VALGERÐAR!

Þar kom að því að Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, léti stjórnarndstöðuna fá það óþvegið. Á óvægin hátt og algerlega umbúðalaust lét hún höggið ríða í fréttum í kvöld: "Stjórnarandstaðan er á móti stóriðjustefnunni" .  Valgerður sagði ennfremur að andstaðan við fumvarp, sem hún hefur árangurslaust reynt að koma í gegnum þingið, og gengur út á að veita henni heimild til að úthluta rannsóknar- og nýtingarheimildum til orkufyrirtækja, sem vilja virkja til stóriðjunota, ef ég skil þetta rétt,  sýndi svo ekki yrði um villst að...
Haffi

7. Desember 2005

SÉRÍSLENSK RÉTTLÆTING?

...Ég vildi vekja athylgi þína á leiðara í Morgunblaðinu 28. nóv. þar sem verið var að prófa nýja söguskoðun, sem gengur út á að réttlæta innrásina í Írak. Ég býst við að hér sé á ferðinni séríslensk réttlæting. Enda er Íslendingum, sem baráttuglöðum þátttakendum í uppbyggingarstarfi Bandaríkjastjórnar í Írak, létt verk að útskýra. Vonandi að hugmynd Blaðsins eig eftir að sigra heiminn. Gaman væri líka að vita skoðun fræðimanna, til dæmis Magnúsar Bernharðs, á þessu merkilega fyrirbrigði, það er hinni "áhugaverðu stöðu í Mið-Austurlöndum um þessar mundir" og útleggingu Morgunblaðsins á henni. En hér er sem sagt...
HH

6. Desember 2005

HVER ER BESTUR? – UM GOTT AUÐVALD OG VONT AUÐVALD


...En þetta var semsé, að mati Matthíasar Johannessen, "gott auðvald". Margir kölluðu þetta "góða auðvald" Matthíasar Kolkrabba, en um áratugskeið hafði hann undirtökin í íslensku þjóðlífi, og ekki alltaf til góðs – fjarri því...Á sama hátt má beina spurningu til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi: Er alveg sama hvernig peningum til barnahjálpar er safnað?  Ég er ekki í vafa um að börnin í Gíneu-Bissá  kæra sig kollótt um það hvernig fjármununum sem þau fá send er aflað. En gætu fjáröflunarleiðir UNICEF orðið þess valdandi að samtökin  réðust síður í verkefni sem ganga gegn hugmyndum og hagsmunum hinna auðugu velgjörðarmanna en ella hefði orðið? Spyr sá sem ekki veit, en...

5. Desember 2005

YFIRVOFANDI BREYTINGAR Á REKSTRI RÚV EÐA VÆRI RÉTT AÐ HUGSA MÁLIÐ BETUR?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og Páll Magnússon, útvarpsstjóri eiga ekki Ríkisútvarpið. Þjóðin á þá stofnun. Í Kastljósi í kvöld hafði ég á tilfinningunni að þau gerðu sér ekki grein fyrir þessu. Þau ræddu lagafrumvarp sem ekki hafði einu sinni verið lagt fram á Alþingi um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins, hvað þá að það byggði á breiðri samstöðu og sátt sem einhvern tímann var lofað varðandi breytingar á lögum um Ríkisútvarpið. Engin slík viðleitni hafði verið uppi. Stjórnarandstaðan kom af fjöllum – hafði ekki einu sinni séð frumvarpið í drögum. Samt var þetta rætt eins og allt væri klappað og klárt og sjónvarpsmenn voru svo ljónheppnir að menntamálaráðherra og útvarpsstjóri voru reiðubúin að sameinast í kynningarátaki í Kastljósi...

2. Desember 2005

VIÐ VILJUM HAFA LJÓSIN LOGANDI!


Undirritaður við hlið Carolu Fischbach-Pyttel, framkvæmdastjóra EPSU, í göngunni.

Launafólk víðs vegar að úr Evrópu tók þátt í mótmælagöngu og útifundi í Brussel á fimmtudag þegar orkumálaráðherrar Evrópusambandsins komu þar saman til fundar. Frá því hafist var handa um að markaðsvæða raforkukerfin í Evrópu hafa 300 þúsund manns misst atvinnu sína, verðlag hefur hækkað og dregið hefur úr öryggi við afhendingu á rafmagni. Þess vegna hljómaði krafan um að við viljum hafa ljósin logandi!

1. Desember 2005

A RAVE FROM THE GRAVE

Þegar ég dvaldist í Bretlandi á árum áður hlustaði ég reglulega á útvarpsþátt þar sem flutt var dægurlagatónlist, einkum úr samtímanum en með reglulegu millibili voru þó leiknir gamlir slagarar, a rave from the grave, einsog og þáttastjórnandinn yfirleitt kynnti þá. Þessi skírskotun til grafarinnar kom upp í hugann þegar ég las grein eftir Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra í Morgunblaðinu í morgun. Greinin ber yfirskriftina Rafmagnsveitur ríkisins hf. Ástæða þess að fortíðin kom upp í hugann er sú að...

30. Nóvember 2005

ÓBREYTT ÞJÓNUSTUTILSKIPUN EVRÓPUSAMBANDSINS YRÐI TILRÆÐI VIÐ VELFERÐARÞJÓÐFÉLAGIÐ

Samtök launafólks í almannaþjónustu á Hinu evrópska efnahagssvæði (European Public Services Union) samþykkti á stjórnarfundi í Brussel í dag harðorð mótmæli gegn þeirri ákvörðun starfsnefndar Evrópuþingsins að mæla með því að öll almannaþjónusta skuli falla undir nýja þjónustutilskipun Evrópusambandsins. Þjónustutilskipun Evrópusambandsins, sem hér um ræðir, hefur að geyma svokallaða upprunalandsreglu þar sem kveðið er á um að kjarasamningar þess lands sem farandfyrirtæki er frá, skuli gilda, ekki samningar þess lands sem fyrirtækið starfar í. Þetta myndi gera að engu íslensk lög um að íslenskir kjarasamningar á vinnumarkaði skuli gilda. Þá eru í tilskipuninni að finna ákvæði um að heilbrigðisþjónustan skuli opnuð fyrir einkavæðingu.

29. Nóvember 2005

VATN FYRIR ALLA

Viðskiptablaðið er skemmtilegt blað og á skilið mikla útbreiðslu. Ekki endilega vegna þess að skoðanir blaðsins séu eftirsóknarverðar. Almennt séð eru þær það ekki. Heldur vegna hins að á blaðinu eru skemmtilegir pennar, bæði hinir föstu og einnig gestapennarnir. Ég gef mér að Birgir Tjörvi Pétursson sé gestapenni. Hann skrifar í síðustu útgáfu blaðsins grein, sem ber sömu yfirskrift og ég gef þessari, „Vatn fyrir alla.“ Grein Birgis Tjörva er um margt ágæt nema hvað að niðurstöður hans orka nokkuð tvímælis.

29. Nóvember 2005

HVERN ÞARF AÐ RÓA?

Fréttablaðið birtir forsíðufrétt þar sem greinir frá því að fyrirhugaður sé fundur með fjármála- og félagsmálaráðuneytum til þess að „…koma ró á málefni Íbúðalánasjóðs.“ Við erum upplýst um að fjármálaráðuneytið hafi sóst eftir undirtökunum í rekstri sjóðsins með því að færa hann til Lánasýslu ríkisins. Fyrirsögn þessarar frásagnar er lýsandi: „fjármálaráðuneytið ásælist Íbúðalánasjóð.“

28. Nóvember 2005

Guðmundur R. Jóhannsson skrifar: ÞAÐ KOM BRÉF

...Það fólk sem nú er að komast á eftirlaunaldur er fókiið sem byggði upp þjóðfélagið eins og það er.  Það eru sjómenn, bændur, iðnaðarmenn og verkafólk sem vann hörðum höndum fyrir sér og börnum sínum með þeim stórkostlega árangri að næsta kynslóð gat lifað í vellystingum praktuglega.  Einmitt það sem þetta fók barðist fyrir. En á það ekki skilið umbun fyrir sitt brautryðjendastarf?  Á það að lepja dauðan úr skel við ævilokin?  Á það að kúldrast í litlum skáp á einhverju “hjúkrunarheimili”  síðustu stundirnar?  Á það að vera eins og betlarar og þurfa að sækja um smáaura til að geta glatt afkomendur sína með súkkulaðistykki eða brjóstsykursmola?
Það eru ekki mörg ár síðan að þúsund krónur voru mikið fé, milljón var eitthvað sem menn vissu að var til en enginn þekkti. Milljarður var stjarnfræðilegt.  Nú virðist það vera skiptimynt.  Einhver fer út í búð að kaupa vindil með síðdegiskoníakinu og kaupir þá alla sjoppuna úr því hann var þar á ferð hvort sem var.
En mun það fólk sem elst upp við milljarða láta sér lynda að búa við nokkur þúsund á mánuði?   Það er ekki vafi að groupfólkið vill annað...

27. Nóvember 2005

AÐ HÆTTI MAFÍUNNAR?

...Í Morgunblaðinu í dag  segir frá samstarfi NÝSIS og Mosfellsbæjar um að reisa nýja íþróttamiðstöð í bæjarfélaginu. Fróðlegt væri að sjá þá útreikninga sérfræðinga Mosfellsbæjar, sem gefa bæjarstjóranum tilefni til að fullyrða eftirfarandi: “Sparnaður sveitarfélagsins vegna þessa samnings er áætlaður á um fimmta hundrað milljónir króna, en áformað er að hefja rekstur miðstöðvarinnar næsta sumar”.  Bæjarstjórinn, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, segir bæjarfélagið spara “á annan tug milljóna á ári.”
Þetta er aldeilis frábært: Bæjarfélagið græðir, Nýsir græðir, allir græða! Alveg eins og Tony Blair sagði í Bretlandi og segir jafnvel enn um einkaframkvæmd af þessu tagi. Verst er að allar rannsóknir benda í aðra átt. Athygli vekur að eitt bæjarfélag sker sig úr hvað þessa stefnu áhrærir...

27. Nóvember 2005

ER ÞINGKARL AMBAGA?

...Hef miklar áhyggjur af útþynningu tungunnar, sem er viðvarandi vandi. Er ekki hins vegar ráð að fara dusta af orðinu "maður" og árétta að það á bæði við um konur og karla. Eða eru karlar einungis þeir sem geta verið mannlegir og konur þá kvenlegar þegar talað er um humanity! Þingkonur er svo sem í lagi, en ambögurnar þingkarlar, sýslukonur, o.fl eru ekki fallegar né hafa nokkurt gildi í jafnréttisbaráttunni. Stóru málin eins og launaleynd, takmörkuð starfsréttindi trúnaðarmanna á vinnustöðum við að ná fram upplýsingum um launakjör o.fl halda áfram að verða...
Borgþór

26. Nóvember 2005

PSI: KRÖFTUGUSTU HEIMSSAMTÖK LAUNAFÓLKS

Í Genf í Sviss hefur í vikunni staðið árlegur stjórnarfundur í Public Services International (PSI), Samtökum launafólks í almannaþjónustu. Ég á sæti í stjórn PSI, tilnefndur af norrænu verkalýðssamtökunum, sem mynda eins konar samráðsheild innan þessara samtaka...Ég tek nokkuð mikið upp í mig í yfirskrift þessarar frásagnar en þetta er einfaldlega mitt mat og hef ég fylgst talsvert með starfi alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar...Barátta íslenskra kvenna vakti verðskuldaða athygli og stóðu allir bókstaflega á öndinni þegar sagt var frá þátttökunni á útifundunum 24. október... má segja að mál málanna hafi nú, sem endranær verið alþjóðavæðingin. Hún birtist í ýmsum myndum, meðal annars í þeirri...

26. Nóvember 2005

KÁRAHNJÚKAVANDI Í HNOTSKURN

Þrátt fyrir bölv og ragn vegna Kárahnjúka fer frændi minn þangað alltaf aftur - og aftur.  Kemur svo þaðan enn verri en fyrr. Síðast spurði hann mig. “Getur það verið eðlilegt að vinna við það að snúa bor inní miðju fjalli í hálft ár án sýnilegs árangurs?”
“Er eitthvað vit í að líma saman grjót?” Síðan spurði hann: “Er eðlilegt að ég sé farinn að sakna Kolkrabbans og hafa samúð með  Hannesi  Hólmsteini?”
Svo endar hann alltaf á þessu...
Runki frá Snotru

22. Nóvember 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: MIÐJA GROUP

Baráttusvið væntanlegra sveitarstjórnakosninga er smátt og smátt að opnast. Þótt við, sem búum utan Reykjavíkur, lítum ekki á okkur sem pólitísa aukaafurð, þá fer ekki hjá því að í höfuðborginni er líklegast að meginstrauma verði vart – strauma sem hafa heilmikil áhrif á landsmálapólitíkina. Sjálfstæðisflokkurinn hefur valið í sitt lið og fer ekki á milli mála að flokkurinn stefnir inná miðjuna. Foringjar Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún og Stefán Jón Hafstein segja slíkt hið sama um markmið síns flokks; miðjan er baráttuvettvangurinn. Um leið og ljóst var að Vilhjálmur Þ. myndi leiða lista Sjálfstæðisflokksins stökk Stefán Jón fram á völlinn og sagði nokkurn veginn þetta...

21. Nóvember 2005

FRÁ SAMKEPPNI TIL FÁKEPPNI – KRISTÍN Í RIMA APÓTEKI OG PRÓFESSOR HALL

...Vatnalög ríkisstjórnarinnar, sem ganga út á að styrkja eignarréttarákvæði í landslögum og búa í haginn fyrir einkavæðingu á vatni í framtíðinni, er nýjasta dæmi um hvert ríkisstjórnin vill stefna ...kannski er það svolítið skondið að það skulum vera við í VG, sem höfum sterkastar taugar til einstaklingsframtaks á borð við Kristínar í Rima Apoteki. Það skyldi þó aldrei vera, þegar allt kemur til alls, að Vinstrihreyfingin grænt framboð sé flokkur einstaklingsframtaksins, flestum öðrum flokkum fremur nú um stundir? Við erum vissulega ...

20. Nóvember 2005

VG Í SÓKN – KOM FRAM HJÁ RÚV ÞEGAR GRANNT VAR HLUSTAÐ

Gleðileg tíðindi fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð voru kynnt í fjölmiðlum í dag því fram kom í könnun sem Fréttablaðið birti í dag að VG er í stórsókn. Nokkuð djúpt var á þessum fréttum í frásögnum Ríkisútvarpsins í dag. RÚV sló því upp að Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig fylgi en Samfylkingin tapaði fylgi samkvæmt umræddri könnun. Kallaður var til stjórnmálafræðingur frá háskólanum á Akureyri, Birgir Guðmundsson, til að útskýra það fyrir hlustendum Ríkisútvarpsins hvort þetta væri vegna formannaskipta í viðkomandi flokkum eða kannski alls ekki vegna formannaskipta, sem Birgir hallaðist nú heldur að. Og fréttastofan tók síðan kjarnan úr fréttinni saman og staðhæfði eftir stjórnmálafræðingnum...

18. Nóvember 2005

FRÁBÆRT AÐ FÁ GUÐMUND Á ÞING!

Það er frábært að fá Guðmund Magnússon inn á þing sem varamann þinn Ögmundur. Hann er góður málsvari okkar öryrkja einsog þú ert reyndar einnig sjálfur. Ég er ekki VG fyllilega sammála í Evrópumálum og er ekkert svona óskaplega uppsigað við Kárahnjúkavirkjun og ykkur í VG. Í samfélgsmálum er ég hins vegar...
Öryrki (sem mun kjósa VG )

17. Nóvember 2005

ER EKKERT AÐ MARKA YFIRLÝSINGAR FRAMSÓKNARMANNA?

Í umræðum á Alþingi sl. miðvikudag um lagafrumvarp sem heimilar ríkisstjórninni að kaupa eignarhlut sveitarfélaga í Landsvirkjun sagði Jón Bjarnason, þingmaður VG m.a.: “Nú hefur það komið fram m.a. hjá hæstv. iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins og einnig líka núverandi formanni Sjálfstæðisflokksins að til stendur að einkavæða og selja orkufyrirtækin og þar með Landsvirkjun...."  Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra brást hin versta við og saðgist vilja koma því á framfæri  “að það stendur ekki til að einkavæða orkufyrirtækin í landinu...Svo einfalt er það mál.”
Ja, skyldi þeta vera alveg svona einfalt mál? Sama Valgerður Sverrisdóttir tjáði sig nefnilega í Katljósþætti hinn 17. febrúar sl. um nákvænlega sama mál en komst að allt annarri niðurstöðu. Eða finnst lesendum þetta ekki nokkuð skýrt sbr. eftirfarandi...?

17. Nóvember 2005

EKKI PÚKKA UPP Á SPILAVÍTISFURSTA Í OKKAR NAFNI

Ég les um það í fjölmiðlum að forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafi þegið boð um að vera viðstödd embættistöku Alberts II. fursta af Mónakó. Okkur er sagt að þessu fylgi veisluhöld, hersýning og fótboltaleikur "í tilefni embættistökunnar." Eflaust er það rétt, sem Morgunblaðsvefurinn segir okkur "að ýmsir þjóðarleiðtogar víðsvegar að úr Evrópu" verði einnig viðstaddir embættistökuna. Nú er Monakó furstadæmi sem fyrst og fremst byggir á spilavítum og þar með grundvallað á afar vafasömum grunni. Mér finnst forsetanum frjálst að heimsækja þetta fólk sem prívatpersóna en vafasamt að gera það í okkar nafni. Í nafni þjóðarinnar á ekki að ...
Sunna Sara

16. Nóvember 2005

ÁHUGVERÐUR FYRIRLESTUR Á FÖSTUDAGSMOGUN

  
...Á vegum BSRB – og í tengslum við þetta vatnsátak – kemur hingað til lands prófessor við háskólann í Greenwich í Englandi, David Hall að nafni, og flytur fyrirlestur um hverjar afleiðingar hafa orðið af því að einkavæða neysluvatn þar sem slíkt hefur verið reynt. David Hall stýrir deild við háskólann í Greenwich sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á skipulagsbreytingum innan almannaþjónustunnar. Miklivægt er að allir þeir sem koma nálægt ákvarðanatöku um framtíð vatnsbóla og vatnsveitna hér á landi kynni sér málflutning Davids Halls. Fyrirlestur hans er ...

15. Nóvember 2005

RÖDD SKYNSEMI OG SANNGIRNI ÚR HEIMI FASTEIGNAVIÐSKIPTA

Enn eina ferðina eru bankarnir byrjaðir að hamst á Íbúðalánsjóði. Að þessu sinni var það bankstjóri KB banka, Hreiðar Már Sigurðsson sem fékk keflið í hönd. Í fréttatíma Ríkissjónvarpsins sl. sunnudagskvöld úthúðaði hann Íbúðalánasjóði, kvað hann ekki standa við yfirlýsingar um "gagnsæi", bryti gegn EES reglum og væri almennt til óþurftar. Hallur Magnússon, frá Íbúðalánasjóði vísaði þessum fullyrðingum til föðurhúsanna á svipuðum nótum og oft áður og mjög í þeim anda sem gert hefur verið á þessari heimasíðu einnig. Allt var þetta semsé í farvegi sem orðinn er gamlakunnur. En Sjónvarpið lét ekki sitja við það eitt að tala við þessa tvo menn heldur snéri fréttastofan sér að þessu sinni einnig til fasteignasala, Ingibjargar Þórðardóttur. Hún rekur fasteignasöluna Híbýli. Hún benti á að væri það ekki fyrir tilvist Íbúðalánasjóðs væri hlutfall eignarhúsnæðis mun lægra hér á landi en raun ber vitni enda lægi í augum uppi að “þeir sem að minna mega sín og hafa lægri tekjur, þeir þurfa að njóta einhverrar ívilnunar.” Það er rétt hjá Ingibjörgu Þórðardóttur að þetta ...

14. Nóvember 2005

SA TIL HNEISU

Birtist í Morgunblaðinu 13.11.05.
...Skjólstæðingar formanns SA, atvinnurekendur þessa lands, eru almennt séð ekki vanhaldnasti hluti þjóðfélagsins. Ingimundur Sigurpálsson hefur litlar áhyggjur yfir því að sá hópur, forstjórar og þeirra hirð, fái fullmikið í sinn hlut...

14. Nóvember 2005

PÓLITÍSKT EINELTI?

...Fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hafa ekki tekið þátt í þessu leiðindasífri í garð borgarstjórans. Í VG höfum við á að skipa úrvalssveit á lista fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Það sem meira er, okkar frambjóðendur koma til með að bera uppi málefni sem eru mikilvæg samfélaginu og eiga erindi inn í samtíð og framtíð. Við skulum ræða við Steinunni Valdísi og aðra félaga hennar í Samfylkingunni á grundvelli málefna eins og við höfum reynt að gera hingað til. Gildir þá einu hverja Samfylkingin kemur til með að velja á framboðslista sinn...

14. Nóvember 2005

ORÐNIR KOLVITLAUSIR?

Eru þið Guðmundur Gunnarsson, Össur og fleiri orðnir kolvitlausir í ummælum ykkar um starfsmannaleigur. Eru engin lög um neitt á Íslandi t.d. meiðyrði. Geta ríkisfyrirtæki notað glæpaaðferðir til að koma á hné fyrirtækjum sem þeim er illa við? Ég þekki hjónin sem stofnuðu 2B og veit að þau reyndu að gera allt eins rétt og löglegt sem kostur er og hafa samráð við alla þá aðila sem NÚ vilja koma þeim á kné, löglega eða ólöglega. Þau voru himinglöð í byrjun því að þetta var svo gaman, því báðir aðilar voru himinlifandi, bæði Pólverjar og ísl. atvinnurekendur. Svo varð fjandinn laus og...
Guðmundur Eiríksson, Selfossi

13. Nóvember 2005

FRAMSÝNI HEFUR ÖÐLAST NÝJA MERKINGU

Ekki veit ég hvort okkur hér á Snotru misheyrðist, þegar menntamálaráðherrann okkar lýsti því yfir á Akureyri nýlega, að það sýndi framsýni hjá skólastjórn Háskólans á Akureyri að leggja niður tvær deildir af sex. Sjálfsagt hefði skólastjórnin að mati ráðherrans sýnt enn meiri framsýni ef hún hefði ákveðið að leggja skólann allan niður. Sjálf hefur Þorgerður menntamálaráðherra sýnt mikla framsýni í málefnum Listdansskóla Íslands því hún tilkynnti nýlega að til stæði að loka þeim skóla fyrir fullt og allt. Þessu var mótmælt eins og þeirri framsýni ráðherrans að vilja...
Runki frá Snotru

11. Nóvember 2005

INGIMUNDUR Í SLÆMUM FÉLAGSSKAP?

Ingimundur Sigurpálsson er dagfarsprúður maður og á meðan hann gegndi stöðu sveitarstjóra og sat í stjórn Lífeyrissóðs starfsmanna ríkisins urðu menn þess ekki varir að hann hefði horn í síðu opinberra starfsmanna. Á stjórnarfundum í lífeyrissjóðnum var hann málefnalegur, alla jafna tillögugóður og vildi lífeyriskerfinu hið allra besta. Um þetta get ég sjálfur borið vitni því við vorum samtíða í stjórninni. Efir að Ingimundur gerðist formaður Samtaka atvinnulífsins virðist einhver viðsnúningur hafa átt sér stað innra með honum. Nú sér hann, ef dæma skal af yfirlýsingum hans á nýafstaðinni ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga, starfsmönnum almannaþjónustunnar allt til foráttu, þeir séu ofhaldnir í launum og kjörum og beindi hann því til sveitarstjórnarmanna að nú væri lag að...

10. Nóvember 2005

ÆTLAR STURLA AÐ FÆRA NÝSI FLUGMÁLSTJÓRN?

...Á kynningarfundi í Samgönguráðuneyti í dag þar sem fulltrúum starfsfólks var boðið að mæta, kom fram að ástæðan fyrir fundinum væri sú að uppfylla þyrfti tiltekin formskilyrði um tilkynningarskyldu á grundvelli laga um réttarstöðu starfsmanna um aðilaskipti, því ákveðið hefði verið að einkavæða þessa starfsemi. Gamla formúlan er að sjálfsögðu uppi, og sagt að ekki eigi að selja, aðeins hlutafélagavæða! Greint var frá því að stýrihópur hefði sett fram fjórar tillögur og mælt með einni gagnvart ráðherra. Hún gekk að sjálfsögðu út á að hlutafélagavæða starfsemina, enda þetta vinnuferli allt undir handleiðslu ráðgjafa úr rekstrarfyrirtækjum, sem eru höll undir einkavæðingu almannaþjónustunnar.  Þegar hefur verið skipaður svokallaður “umbreytingahópur” til að...

9. Nóvember 2005

HVERT STEFNIR HJÁ SAMTÖKUM LAUNAFÓLKS INNAN ALMANNAÞJÓNUSTUNNAR?


...Fólk er hætt að fást til mikilvægra starfa innan almannaþjónustunnar, svo sem í heilbrigðiskerfinu. Ef ekki er tekið mið af þessu í fjárveitingum til stofnanasamninga sem gerðir verða á samningstímabilinu mun illa fara, ekki einvörðungu fyrir starfsfólkinu heldur fyrir þeirri þjónustu sem á að veita. Og því mega stjórnvöld ekki gleyma að hætta sem steðjar að hinu niðurnjörvaða opinbera vinnuumhverfi er mikil núna vegna þenslu í þjóðfélaginu og samkeppni...

9. Nóvember 2005

SEINHEPPINN HALLDÓR - EÐA...?

Halldór Ásgrímsson svaraði í dag spurningum þingmanna Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Alþingi um álstefnu Framsóknarflokksins. Þessu voru gerð góð skil í sjónvarpsfréttum í kvöld. Framsókn er sem kunnugt er haldin óstöðvandi áhuga á að reisa álver. Þegar smíði eins álvers lýkur þarf að hefjast handa um smíði næsta álvers eða stækka þau álver sem fyrir eru.  Engu líkara er en Framsókn vilji gera Ísland að einu stóru álveri. Stalín hefði ekki gert betur sagði Jón Bjarnason. Stundum hafa menn líkt áláfergju Framsóknar við trúarbrgögð. Spurning hvort formaður Framsóknaflokksins líti ekki einmitt svo á sjálfur eða var hann kannski bara seinheppinn þegar hann sagði...
Sunna Sara

7. Nóvember 2005

NEYÐARÓP FRÁ FRAMSÓKNARFLOKKNUM

Birtist í Morgunblaðinu 06.11.05.
Fimmtudaginn 3. nóvember skrifar Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni Neyðaróp frá RÚV. Ég fæ ekki betur séð en Hjálmar Árnason sé með þessari grein að undirbúa svik Framsóknarflokksins við eigin samþykktir um að Ríkisútvarpið verði ekki gert að hlutafélagi...Á stjórnkerfi Ríkisútvarpsins þarf að gera ýmsar breytingar til úrbóta. Fram hafa komið sannfærandi tillögur í því efni án þess að orðið verði við kröfu markaðssinna um að færa Ríkisútvarpið upp á færiband til einkavæðingar. Væri ekki rétt að skoða þær...?

7. Nóvember 2005

EFTRILAUNAHNALLÞÓRAN Á ALÞINGI

Þær eru margar og mis matarmiklar lífeyris og eftirlaunakökurnar í þessu þjóðfélagi sem þeir sem gegnt hafa ráðherra- og alþingismennsku hafa bakað sér, með hráefni frá okkur almúganum; alveg einstaka og matarmikla eftirlaunaköku og það sem meira er þeir geta farið að borða hana löngu áður en þeir í raun hætta störfum, eins og dæmin sýna. Síðan eru það starfsmenn ríkis og bæja. Á þeim bænum er alveg gulltryggt að kakan sem býður þeirra við starfslok, er alltaf fersk og heldur sínu næringargildi á öllum tímum. Komi í ljós að minnsta rýrnun hafi orðið á næringargildinu , þá er bara náð í meira fóður...
Sævar Helgason

6. Nóvember 2005

TEKIÐ UNDIR MEÐ NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAGI ÍSLANDS: BURT MEÐ BLEKKINGAAUGLÝSINGAR

...Hér höfðar Náttúrulækningafélag Íslands til Neytendasamtakanna. Ég vil einnig nefna Samtök auglýsingastofa og þá ekki síður embætti Talsmanns neytenda. Gísli Tryggvason, sem nýlega hefur tekið við embætti Talsmanns neytenda hefur sýnt lofsverða byrjun. Hann hefur heimsótt félagasamtök og stofnanir og leitað eftir áliti þeirra um æskilegar áherslur í starfi. Efast ég ekki um að Gísla Tryggvasyni  á eftir að takst að gera embætti Talsmanns neytenda að öflugu tæki í neytendavernd... Augljóst er að embættið mun koma að lagasmíð og þá einnig verða eftirlitsaðili gagnvart því að farið sé að lögum og þá kannski einnig siðareglum. Ef þetta er réttur skilningur er einboðið að embættið verði að hyggja að ábendingum Náttúrulækningasamtaka Íslands...

5. Nóvember 2005

HAFA SKAL ÞAÐ SEM SANNARA REYNIST

...Á meðal þeirra sem tóku þátt í þessari umræðu var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og nefndi hún í umræðunni að tekist hefði að draga úr kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg um 50% á árabilinu 1995 til 2001. Þetta véfengdi ég með þeim orðum að ég væri ekki reiðubúinn að skrifa upp á að svo hefði verið og nefndi einnig að vegna þeirra launakerfisbreytinga sem gerðar hefðu verið á þessu tímabili hefði kjaramunurinn í borginni, á milli þeirra hæstu og hinna lægstu aukist. En þótt svo hafi verið mun hitt vera rétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu að kynbundinn launamunur minnkaði um 50% á þessu tímabili. Ég hefði því betur látið ógert að draga þær staðhæfingar hennar í efa og mun...

4. Nóvember 2005

EIGA PENINGAMENNIRNIR AÐ STJÓRNA DANSINUM?

Í morgun fór fram nokkuð sérstök umræða á Alþingi um málefni Listdansskóla Íslands. Frá því var skýrt í sumar að skólinn yrði lagður niður með valdboði. Þetta gerðist með þeim hætti að á fyrsta fund starfsmanna eftir sumarfrí, hinn 16. ágúst síðastliðinn, birtist pólitísk aftökusveit úr menntamálaráðneytinu til að tilkynna um fyrirhugaðan dauðdaga þessarar merku stofnunar. Þetta kom sem þruma úr heiðskíru lofti enda hafði ekkert samráð verið haft við stjórnendur og aðra starfsmenn skólans. Á þessum fundi var þeim skýrt frá því að menntamálaráðherra hefði ákveðið þetta - einhliða. Um það væri ekki neitt frekar að segja. Það sem sérkennilegast var við þessi vinnubrögð í sumar og endurspeglaðist við utandagskrárumræðuna á Alþingi nú, er sú mótsögn sem í því er fólgin að ráðherra taki ákvörðun sem sögð er vera stórgóð fyrir listdansinn í landinu en á sama tíma treystir þessi sami ráðherra sér ekki til þess að ræða áform sín og ákvarðanir við starfsmenn þess skóla þar sem þessari kennslu hefur verið sinnt. Væri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra viss um að hún hefði góðan málstað að verja,  ætti hún jafnframt að geta rætt þessi mál augliti til auglits við það fólk sem hefur starfað að þessum málum. Sá grunur læðist að manni að samviska ráðherra...

4. Nóvember 2005

RÉTTURINN TIL VATNS - HVERNIG SKAL HANN TRYGGÐUR?

Birtist í Morgunblaðinu 03.10.05.
Um  síðustu helgi stóðu sjö samtök og stofnanir að ráðstefnu um vatn undir yfirskriftinni Vatn fyrir alla. Samhliða þessari ráðstefnu gáfu samtökin BSRB, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Þjóðkirkjan, Kennarasamband Íslands, MFÍK og SÍB út sameiginlega yfirlýsingu til að vekja athygli á mikilvægi vatns og sérstöðu. Morgunblaðið gerði þessari ráðstefnu mjög góð skil og í leiðara blaðsins 1. nóvember er fjallað um hana og  vitnað í yfirlýsinguna sem samtökin sjö standa að.
Í yfirlýsingunni er bent á að þótt enginn vatnsskortur sé á Íslandi sé staðan...

3. Nóvember 2005

HÚRRA FYRIR VINNUMÁLASTOFNUN


...Í kvöldfréttum Sjónvarps í gær og síðan í Kastljósi í kjölfarið var lagt út af innanhússpósti í Vinnumálastofnun þar sem fram kom það sjónarmið starfsmanns að afgreiða ætti umsókn um starfsleyfi fyrir tiltekinn erlendan verkamann með "ljóshraða" enda mætti búast við því að fyrir vikið væri verkamaðurinn reiðubúinn að fletta ofan af óheiðarlegum vinnubrögðum óprúttinnar starfsmannaleigu. Kristján Kristjánsson stýrði umræðunni í Kastljósi og fórst það vel úr hendi. Hins vegar var bæði í fréttum og kynningu á samtali framkvæmdastjóra Vinnumálastofnunar og lögmanns starfsmannaleigu sem legið hefur undir ámæli fyrir óprúttin vinnubrögð, gefið sterklega í skyn að Vinnumálastofnun hefði misnotað aðstöðu sína...

3. Nóvember 2005

HVENÆR ER KOSIÐ Í REYKJAVÍK?

Eru borgarstjórnarkosningar nú á föstudaginn? Það er algjörlega með ólíkindum hvað þessi fánýti slagur milli tveggja karla tekur mikið pláss, tíma og athygli fjölmiðla nú dögum og vikum saman. Talað er eins og verið sé að takast á um eitthvað sem máli skiptir. Á dögunum var í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 beinlínis sagt að borgarstjórnarkosningarnar byrjuðu nú á föstudaginn en þó tók steininn úr þegar Ólafur Þ. Harðarson prófessor var tekinn tali í fréttum Ríkissjónvarpsins og spurður hvernig hann læsi í ...
Fjóla

3. Nóvember 2005

Steingrímur Ólafsson skrifar: SAMFYLKINGIN SEGI HVORT HÚN VILJI VINNA TIL HÆGRI EÐA VINSTRI

Í lok apríl á síðastliðnu ári skrifaði ég grein á þennan vef sem bar nafnið ,,Tvígengisvélin hikstar". Tilefni greinar þeirrar var að þá var mikil krísa í samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ...Kallaði ég þar eftir skýrum svörum frá forystu Samfylkingarinnar um hver hinn raunverulegi pólitíski vilji Samfylkingarinnar er. Ég spurði hvort Samfylkingin vildi vinna með hinum stjórnarandstöðuflokkunum að uppbyggingu betra þjóðfélags fyrir alla, eða með íhaldinu að enn frekari tilfærslu auðs og eigna til handa fáum. Vil ég að Samfylkingin svari þeirri spurningu fyrir næstu alþingiskosningar og gangi þar með bundin til kosninga. Svari skýrt og skorinort hvort hún vilji vinna til hægri eða vinstri...

2. Nóvember 2005

UM FRÉTTAMENNSKU – DÆMI AF ORKUVEITU OG FORSETA ÍSLANDS

Í fréttum í morgunútvarpi fór Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, mikinn og sagði það ósannindi sem haldið hefði verið fram, að til stæði af hálfu Sjálfstæðisflokksins að selja Orkuveituna. Þetta þótti fréttastofu RÚV tilefni til að kynna fréttina á þá leið, að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki einkavæða Orkuveituna. Þetta er ónákvæm nálgun...Þannig hefði verið fróðlegt að heyra hvort Sjálfstæðisflokkurinn væri sammála Vinstrihreyfingunni grænu framboði um að ekki eigi að gera Orkuveituna að hlutafélagi, en það er afstaða, sem ég stóð í meiningu um að VG hefðu verið ein um áður en samkomulag náðist um það í R-listanum að gera Orkuveituna að sameignarfélagi...Hitt dæmið úr fréttamennskunni sem ég vil tína til, lýtur strangt til tekið ekki að hugtakanotkun heldur öllu fremur afstöðu...

1. Nóvember 2005

ÁGÆTI RÍKISSAKSÓKNARI !

Þetta eru ávarpsorðin í bréfi Árna Guðmundssonar,  æskulýðs- og tómstundafulltrúa í Hafnarfirði í bréfi sem hann hefur skrifað embætti ríkissaksóknara. Tilefni þess að Árni skrifar embættinu er krafa hans um að fjölmiðlar sem brjóta lög um bann við áfengisauglýsingum verði látnir svara til saka.  Yfirlýsingar Kára Jónassonar, ritstjóra Fréttablaðsins í útvarpsviðtali nýlega eru merkilegar fyrir þá sök að fyrir hönd fréttamiðils síns viðurkennir hann lögbrot.  Þetta er í sjálfu sér heiðarlegt af hans hálfu. En finnst ríkissaksóknara það vera í lagi að brjóta lögin?
Eftirfarandi er bréf Árna Guðmundssonar til ríkissaksóknar....

1. Nóvember 2005

SAMFYLKINGIN ÞARF AÐ TALA SKÝRAR

Birtist í Morgunblaðinu 31.10.05.
...Ég er hins vegar í allt öðrum erindagjörðum á síðum Morgunblaðsins en að leita eftir samstarfi við hægrimenn. Ég næri nefnilega þá von í brjósti að hægt verði að mynda vinstri velferðarstjórn, nokkuð sem ég hef barist fyrir allar götur frá því ég gaf mig í stjórnmálabaráttuna fyrir margt löngu. Innan VG erum við samstiga um að vilja hreinar og skýrar línur fyrir kosningar þannig að jafnt kjósendur sem áhugasamir samstarfsaðilar viti að hverju þeir gangi...

31. Október 2005

LAUNAMUNUR KYNJA ER EKKI EINI LAUNAMUNUR SEM VERT ER AÐ SKOÐA

Í morgunútvarpi í dag var fjallað um fæðingarorlof karla. Rætt var við hæstráðendur í banka. Spurt var hver ástæða væri fyrir því að karlar fari síður í fæðingarorlof en konur en sérstaklega var fjallað um hátekjuhópinn. Var það vegna launataps? Það getur verið erfitt að sjá á eftir þeim peningum sem tapast, eða hvað? Vegna þaks sem er á greiðslum fer maður með tvær milljónir á mánuði niður í 480 þúsund en viðmiðunarþakið á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði er 600 þúsund og er að hámarki greidd 80% af því. Þetta var fullkomlega eðlileg spurning og svarið var líka heiðarlegt. Bankamaðurinn sagði aðra þætti ráða en launatapið. Mér varð þó hugsað til þess hve langt við erum komin frá heimi ...

30. Október 2005

Kristján Hreinsson skrifar: TÍMINN OG SÍMINN

Þegar ég var unglingur þá orti ég lítið ljóð sem var á þessa leið...
Þetta minnir mig einhvernveginn á tímann og Símann, því tíminn sem leið frá því kjötkatlafurstar einkavæðingar vildu fyrst gefa Símann og þar til þeir gáfu hann, var á margan hátt einkar dýrmætur tími. Mér er sagt að einkavinavæðingarnefndin hafi...Svo er það annað sem tengir saman tímann og Símann, og það er sá tími sem er liðinn frá því nýir eigendur Símans lofuðu að hagræðingin myndi nú ekki hafa í för með sér neina sérstaka annmarka fyrir landsbyggðina, og þar til þessir sömu eigendur byrjuðu að segja upp starfsfólki úti á landi. Svo kemur önnur skemmtileg tenging upp, en það er...

30. Október 2005

ÓVÆNT ÚTSPIL Í KVÓTAMÁLUM

Nokkur blaðaskrif hafa orðið síðustu daga í kjölfar Opins bréfs til Samfylkingarfólks, sem ég birti í Morgunblaðinu fyrir rúmri viku. Helgi Hjörvar skrifaði á meðal annarra ágæta grein í Morgunblaðið þar sem hann vék að ýmsum málefnum, sem Vinstrihreyfingin grænt framboð og Samfylkingin hafi verið sammála eða ósammála um eftir atvikum en tilefni þessara greinaskrifa voru einmitt möguleikar þessara tveggja flokka á samstarfi; nokkuð sem ég hef talið fýsilegan kost. Enda þótt Helgi byði VG til samstarfs í fyrirsögn greinar sinnar kom í ljós þegar sjálf greinin var lesin að hann sá á þessu ýmsa annmarka og vék hann t.d. að kvótamálum með eftirfarandi hætti...

29. Október 2005

BJÓR. AUGLÝSINGAR, FÍKNIEFNABARÁTTAN OG FORSETI

...Strax að loknu viðtalinu við forsetann braut ríkissjónvarpið upp beina útsendingu með auglýsingum sem fer í bága við lög og reglur. Í auglýsingatímanum á eftir forsetaviðtalinu um fíkniefnavá voru síðan tvær bjórauglýsingar, sem líka gagna gegn lögum. Þarna var sem sagt forsetinn að berjast gegn fíkniefnum studdur af lyfjafyrirtækinu í ríkissjónvarpi í sjónvarpsþætti sem þetta kvöldið var borinn uppi af áfengisauglýsingum og allt settið skælbrosandi. Þar sem ég stóð yfir pottunum heyrðist mér liðið vera að bera saman siðferðisleg gildi og lagareglu. Gaman og þverstæðukennt að vera ...
Ólína

29. Október 2005

STÓRKOSTLEG RÁÐSTEFNA UM VATN


Í dag var haldin ráðstefna um vatn sem 7 almannasamtök stóðu að: BSRB, Kennarasamband Íslands, Landvernd, Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna, Náttúruverndarsamtökin, Samtök starfsfólks fjármálafyrirtækja og Þjóðkirkjan. Frá því er skemmst að segja að ráðstefnan var aldeilis mögnuð. Hafi einhver, sem þessa ráðstefnu sótti haft efasemdir um að þetta umræðuefni ætti erindi inn í íslenska samfélagsumræðu, þá hurfu þær sem dögg fyrir sólu eftir því sem leið á ráðstefnuna. Ráðstefnugestir sátu og hlustaðu hugfangnir á hvert erindið á fætur öðru. Fyrir mitt leyti segi ég að þetta var einhver áhugaverðasta ráðstefna sem ég hef sótt í langan tíma. Almennt held ég að þetta hafi verið...

28. Október 2005

BREIÐ SAMSTAÐA UM VATNIÐ


Á þessari auglýsingu, sem hér má sjá, er vakin athygli á ráðstefnu, sem sjö félagasamtök og stofnanir efna til, um mikilvægi vatns og hvernig með það er farið. Viðfangsefnið er skoðað frá mörgum sjónarhólum og fulltrúar stjórnmálaflokkanna skýra framtíðarsýn þeirra á vatnið. Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt áratuginn 2005 til 2015 sem áratug vatnsins og hvetja alla, ríkisstjórnir, stofnanir, samtök og einstaklinga, til að huga að gildi vatnsins og leggjast á eitt um að tryggja verndun þess og aðgang...

28. Október 2005

ER EKKI MÁLFRELSI Í LANDINU?

...Telur formaður Samfylkingarinnar sig þess umkominn að gera einhvers konar samkomulag fyrir  hönd þjóðarinnar um hvað megi segja og hvað ekki um kvótaþjófnaðinn, einhvern mesta glæp Íslandssögunnar! Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin eyrum þegar sagt var frá því í fréttum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði troðið upp á LÍÚ þingi og boðið upp á sættir í kvótamálinu!! Útvegsmenn ættu að hætta að tala um að þeir ættu kvótann, sagði hún, aðrir að þegja um glæp þeirra og láta af ásökunum í þeirra garð. Er ekki ...
Haffi

28. Október 2005

GOTT HJÁ JÓNI BJARNASYNI!

Það hljómar eins og grín, mjög kaldranalegt að vísu, að Símanum skuli hafa verið veitt sérstök markaðsverðlaun á sama tíma og fyrirtækið lokar þjónustustöðvum og rekur starfsfólk. Síðast var það dótturfyrirtækið Já sem fíraði konur á Ísafirði, sem sumar hverjar höfðu starfað um áratugi hjá Símanum. Það þurfti mann sem þorir, til þess að tala hreint út um þetta og segja sem var að það væri óskammfeilni af verstu gráðu að fá forseta Íslands, Ísfirðinginn Ólaf Ragnar Grímsson, til þess að afhenda verðlaunin! Maðurinn sem talaði tæpitungulaust um þetta...
Ísfirðingur

27. Október 2005

Kristján Hreinsson skrifar: FLUGVÖLLUR Í LAUSU LOFTI...

Flugvöllurinn í Vatnsmýri á að vera þar sem hann er, allt þar til menn hafa fundið lausn sem er sambærileg eða betri en sú sem nú er að virka. Auðvitað eru menn alltaf að koma með lausnir, en þær lausnir sem þegar hafa komið fram í máli þessu eru hver hinni verri. Sumar hverjar jafnvel svo kjánalegar að á þær er ekki hægt að minnast ógrátandi. Mál þetta má ekki sækja á þeirri forsendu einni, að menn vilji eignast dýrt land undir byggingar svo þétta megi byggð í borginni, því slík hugsun nær ekki að segja okkur hvernig flugsamgöngurnar eiga að vera um ókomin ár. Og það er einfaldlega ekki nógu skýr hugsun, að setja af stað samkeppni um skipulag í Vatnsmýrinni, á meðan framtíð flugsamgangna milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis hangir í lausu lofti. Það er ekki heldur nóg að ...

27. Október 2005

TILBOÐIÐ Í LANDMÆLINGAR ER VÍTI TIL VARNAÐAR

Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, lýsti því yfir sl. vor að hún vildi fylgja þeirri stefnu að Landmælingar kæmu ekki til með að annast verkefni, sem væru hugsanlega í samkeppni við önnur fyrirtæki. Þetta er að mínum dómi fráleit stefna og hefur það komið mér spánskt fyrir sjónir að forstjóri Landmælinga, Magnús Guðmundsson, skuli taka undir þessi sjónarmið (sbr. eftirfarandi í viðtali við DV 19.október “... ekkert nema gott þegar einkaaðilar vilja taka við starfsemi hins opinbera.” Þessu er ég ósammála og tel þetta vera misráðna afstöðu af hálfu forstjórans og ráðherrans ekki síður.  Því með þessari stefnu...

27. Október 2005

SAMFYLKINGIN OG EINKAVÆÐINGIN

...Sannast sagna leið mér hálf illa undir viðtalinu við formann Samfylkingarinnar. Mér hefði fundist smekklegra að þegja. Hvers vegna fréttakonan spurði ekki út í hina hrópandi mótsögn í málflutningi formanns Samfylkngarinnar skil ég ekki. Það hefði verið eðlileg fréttamennska og síðan hefði ekki verið úr vegi að heyra rödd VG, eina flokksins sem alltaf andæfði sölu Símans, meðal annars á þeirri forsendu að það myndi bitna á starfsfólki, einkum ...
Sunna Sara

26. Október 2005

BLAIR TEKINN Í BÓLINU

Breska stjórnin með Blair forsætisráðherra í broddi fylkingar hefur heldur betur verið tekin í bólinu. Margoft hefur hún staðhæft að einkaframkvæmd innan samfélagsþjónustunnar hafi gefið góða raun og vitnað í skýrslur máli sínu til stuðnings. Stærsta verkalýðsfélag Bretlands, Unison, fékk fræðimenn til að fara í saumana á meintum sönnunargögnum ríkisstjórnarinnar. Í ljós kom að þar stendur ekki steinn yfir steini. Ríkisstjórnin hefur nefnilega vitnað í gögn sem bæði eru ófullkomin og blekkjandi...Forsvarsmaður Unison, Dave Prentis, segir úttekt verkalýðshreyfingarinnar vera hrikalegan áfellisdóm yfir ríkisstjórninni, og hnykkir á: "Við höfum alltaf haldið því fram að einkaframkvæmd væri hrein sóun á peningum skattgreiðenda…

26. Október 2005

HÆKKUN FJÁRMAGNSTEKJUSKATTS OG HÚSALEIGAN

Sæll. Mér skilst að þú sért flutningsmaður að tillögu um að hækka fjármagnstekjuskatt úr 10 % í 18 %. Alltaf virðist þið halda að bara eitthvert ofsalega ríkt fólk greiði slíkan skatt, en ekki vesælustu fátæklingar þessa lands. Mikill er misskilningur þinn. Dæmi: Undir þennan skatt falla húsaleigutekjur. Ef hann verður hækkaður um 80 % (eða hvað sem er) mun húsaleigan hækka um það. Rýrðu ekki kjör hinna lægst launuðustu með þessari vanhugsuðu tillögu ykkar. Hugsaðu ...
Örn Johnson

24. Október 2005

HREINN OG STROKINN EN EKKERT NEMA..

Í sjónvarpinu sat hann kyrr,
svona hreinn og strokinn
en innrætið sem áður fyrr,
ekkert nema hrokinn.
Kristján Hreinsson, skáld

24. Október 2005

BARÁTTUANDINN ÓLGAR

Dagurinn í dag var stór dagur í jafnréttisbaráttu kvenna. Tugþúsundirnar, sem tóku þátt í fjöldagöngunni í Reykjavík og fjölsóttir baráttufundir um allt land undirstrikuðu samstöðu kvenna og þann ásetning þeirra að ná árangri í baráttu sinni fyrir jafnrétti. Loftmyndin af mannhafinu í Reykjavík var mögnuð. Hún er táknræn og verður án efa stimpluð inn í Íslandssöguna.  Stemningin mun lifa og glæða baráttuandann um ókomna tíð...Það var gaman að fylgjast með því hvernig þessi stemning geislaði inn í fjölmiðlana. Þar var margt ágætt sagt. Halla Gunnarsdóttir, ung baráttukona, minnti okkur á eðli réttindabaráttunnur. Það er ekkert gefið, sagði hún. Það þarf að berjast fyrir umbótum en gleymum því heldur ekki, að það þarf baráttu til að verja það sem áunnist hefur...

23. Október 2005

MARGIR RÁÐHERRAR UM SMÁA GREIN

   

 
Birtist í Morgunblaðinu 22.10.05.
...Sannast sagna rak mig í rogastans þegar ég las grein sem utanríkisráðherrar allra Norðurlandanna sendu frá sér í sameiningu og birtist í norrænum blöðum 22. júní sl.. Tilefnið var ráðstefna sem þá var haldin í Brussel um Írak og var fyrirsögn greinarinnar Skilaboð Norðurlanda til Íraksráðstefnu. Mjög erfitt er að átta sig á hver þessi skilaboð áttu að vera að öðru leyti en því að utanríkisráðherrarnir vonuðust til að Írakar fengju að búa við frið og öryggi, njóta mannréttinda og lifa án fátæktar og kúgunar. Hljómar vel. En síðan þegar farið er að rýna í textann kemur í ljós að þessi orðsending frá norrænu utanríkisráðherrunum er lítið annað en réttlæting á innrásinni í Írak og stuðningur við sögutúlkanir Bush-stjórnarinnar bandarísku. Svona er andstaðan við hernmámsliðið afgreidd...

22. Október 2005

OPIÐ BRÉF TIL SAMFYLKINGARFÓLKS

Birtist í Morgunblaðinu 21.10.05
...Vel má vera að Samfylkingin telji það vera til vinsælda fallið á 21. öldinni, að gerast eins hægri sinnaður og hægri vængur Sjálfstæðisflokksins. Þá hættir flokkurinn hins vegar að vera félagshyggjuflokkur. Og fyrir okkur, sem horft höfum til Samfylkingarinnar sem vænlegs samstarfsflokks í stjórnmálum, vakna áleitnar spurningar.
Stjórnmálaflokkar verða að tala skýrt. Það gengur ekki fyrir Samfylkinguna að láta sem flokkurinn sé þenkjandi á jafnaðarvísu um leið og boðuð er grundvallarbreyting á samfélaginu í anda stækustu peningafrjálshyggju. Slíkt kallast að bera kápuna á báðum öxlum. Kemur fólki, sem stendur utan Samfylkingarinnar, það við hvernig hún hugsar og talar? Í tvennum skilningi er svo...

21. Október 2005

ÞINGMENN BÚI VIÐ SÖMU EFTIRLAUNAKJÖR OG AÐRIR

Mig langar að vita hvernig það gat gerst að ráðamenn þjóðarinar haga sér eins og hálfvitar og að ekkert sé gert í því t.d. að heimta afsögn þeirra. Og hérna er ein hugmynd til að spara útgjöld hjá ríkinu: Segja upp öllum starfslokasamningum. Þingmenn eru ekkert of góðir til þess að lifa af eftirlaunum eins og aðrir í þessu landi. Lækkið launinn hjá þeim launahæstu...
Magnús Freyr Ingjaldsson

20. Október 2005

SKERT FERÐAFRELSI BLINDRA

Heill og sæll félagi. Sá þitt ágæta svar varðandi hundahaldið. Eitt langar mig til að hnippa í þig með. Blindum er óheimilt enn að ferðast með blindrahundi í strætó í Reykjavík, einu höfuðborg Norðurlanda sem þannig háttar til um í málefnum blindra.
Kveðja,
Borgþór

20. Október 2005

Drífa Snædal skrifar: FJÖLKVENNUM OG - MENNUM 24. OKTÓBER!

...Sjónum okkar hefur líka verið beint að misrétti á öðrum sviðum, í stjórnmálum, þar sem peningavaldið er og inni á heimilum þar sem allt of margar konur búa við öryggisleysi og ógn. Margt er óunnið í kvenfrelsismálum en kvenfrelsi er forsenda þess að jafnrétti náist. Ef kvennabarátta síðustu aldar hefur kennt okkur eitthvað hlýtur það að vera að jafnrétti næst ekki af sjálfu sér. Til að ná jafnrétti þarf stöðuga baráttu bæði í vörn og sókn. Það er svo sannarlega tilefni til að íslenskar konur – og karlar, snúi bökum saman í baráttunni og sýni að sá hugur sem einkenndi 24. október fyrir þrjátíu árum síðan býr enn í okkur. Mætum öll í kröfugöngu klukkan þrjú á mánudaginn og göngum fylktu liði undir slagorðinu „konur höfum hátt“ niður á Ingólfstorg. Gerum 24. október 2005 að upphafi endaloka kynjamisréttis...

20. Október 2005

VIÐ BERUM ENGA ÁBYRGÐ!

...Á sínum tíma var gumað af því að Eimskipafélag Íslands væri óskabarn þjóðarinnar. Alþýða manna bæði hér á landi og í byggðum Vestur-Íslendinga gáfu stórfé til að félaginu tækist að sinna þjóðþrifaverkefnum, sjá um strandsiglingar umhverfis landið og annast millilandasiglingar.Síðan komu nýir tímar. Peningahyggja nær undirtökum. Burðarás kaupir Eimskipafélagið og eftir kaupin lýsir forsvarsmaður Burðaráss yfir eftirfarandi um eignarhaldsfélag Eimskipafélagsins...Þá er það Flugfélag Íslands, Icelandair sem nú er að finna undir hatti FL group. Flugfélag Íslands á langa sögu sem helsta flugfélag þjóðarinnar og í tímans rás hefur þjóðin jafnan komið því til bjargar þegar á hefur þurft að halda. Forsvarsmenn FL group, leggja nú áherslu á að þeir séu fyrst og fremst í forsvari fyrir fárfestingaklúbb. Fl group sé ekki flugfélag þótt klúbburinn eigi flugfélag. Gefum þeim sjálfum orðið á heimasíðu klúbbsins...

19. Október 2005

FLUGVÖLLUR Á LÖNGUSKERJUM ER FRÁLEITUR KOSTUR

Birtist í Morgunpósti VG 18.10.10
...Hrafn vildi flytja Árbæjarsafn í Hljómskálagarðinn, hækka byggingu hér, lækka þar, til dæmis vildi hann sníða nýbyggingu ofan af gamla Útvegsbankanum, núverandi dómshúsi við Lækjartorg, endurskoða afstöðu okkar til fífilsins og sóleyjarinnar, en eins og menn rekur ef til vill minni til fór grassláttur og reyting "illgresis" mjög fyrir brjóstið á Hrafni. Þessar hugmyndir og fleiri setti hann fram í litlum þætti í Ríkissjónvarpinu. Tilgangurinn var augljóslega að kveikja umræðu, sem svo sannarlega tókst enda bryddað á ýmsum snjöllum hugmyndum og okkur sýnt sjónarhorn sem við flest hver höfðum ekki komið auga á. Þetta var hið besta mál, líka hugmyndin um flugbraut á Lönguskerjum í Skerjafirði! Hví ekki að hugleiða þann kost? Glæsilegt aðflug að borginni! Svo fórum við að hugsa, alla vega sum hver...

19. Október 2005

SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR VILL EINKAVÆÐA

Nú vill Íhaldið einkavæða Landsvirkjun. En hvað þá með Íhaldið í borginni?? Vill það einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur?? Og ef þeir neita því eins og ég geri ráð fyrir. Er þeim treystandi fyrir fyrirtækinu eftir þá ályktun sem kom frá landsfundinum???
Sigurður H. Einarsson

18. Október 2005

ÓKEYPIS Í STRÆTÓ - RAUNHÆFUR KOSTUR?

...En segjum nú sem svo að bæjarfélögunum og þeim sem með þessi mál möndla fyrir þeirra hönd tækist nú að gera úr garði gott leiðakerfi með tíðum ferðum – mundi það eitt og sér duga til að fólk færi að nota almenningssamgöngur í æ ríkara mæli? Það held ég ekki. Ég held að það þurfi um leið að koma íbúum höfuðborgarsvæðisins á bragðið, kenna þeim í bókstaflegum skilningi að nota strætó, og það yrði best gert með því að hafa ókeypis í strætó. Og er ég þá ekki hugsa um einn dag, heldur amk. tíu ár eða svo. Með þessu móti tækist án efa að...
Þorleifur Óskarsson

16. Október 2005

GEIR Á EINKAVÆÐINGARBUXUM: NÆST ER ÞAÐ LANDSVIRKJUN

...Tvær spurningar til Geirs H. Haarde. Í fyrsta lagi, ef til stendur að selja Landsvirkjun, hvers vegna ekki selja strax? Er skýringin ef til vill sú, að fyrst þurfi að láta skattborgarann, hreinsa upp skuldir og klára allar skuldbindingar sem gerðar hafa verið í þágu fjölþjóðlegu álauðhringanna sem Landsvirkjun hefur verið gert að þjóna? Þá fyrst og aðeins þá, sé vænlegt að bjóða hnossið til kaups; er þetta ástæðan fyrir því að Geir vill bíða í nokkur ár?
Síðari spurningin er þessi: Hver segir að lífeyrissjóðir séu svokallaðir "langtímafjárfestar", sem formaður Sjálfstæðisflokksins nefnir svo? Samkvæmt lögum, sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks stóð að, er lífeyrissjóðunum beinlínis skylt að fjárfesta aðeins þar sem...
Staðreyndin er líka sú, að lífeyrissjóðirnir hafa verið harla kænir braskarar á markaði og hafa haft það umfram aðra fjárfesta að þeir eru ekki að hugsa um völd, aðeins ágóða. Eðlilegt er að nú sé spurt hvort líklegt sé að einhver hugarfarsbreyting myndi eiga sér stað hjá lífeyrissjóðunum ef peningar þeirra væru í hlutabréfum í Landsvirkjun h.f.? Spyr sá sem...

15. Október 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: EF ÉG VÆRI RÍKUR?

...Ég myndi stofna fjölmiðla og byrja á dagblaði (þó nú væri, fyrrverandi ristjóri Þjóðviljans!). Ef vel gengi myndi ég sennilega færa út kvíarnar, en látum það liggja á milli hluta. Hverskonar blað myndi ég stofna og hverjir fengju vinnu á því blaði og á hvaða forsendum? Til að einfalda skilgreiningarnar myndi ég stofna vinstri sinnað blað, gagnrýnið á misréttið sem viðgengst í samfélaginu og heiminum öllum – en um leið skemmtilegt blað með fjölbreyttu innihaldi. Á þessum forsendum myndi ég ráða ritstjóra sem síðan réði sér samstarfsmenn á ritstjórnina og framkvæmdastjóra til að sjá um fjármálin og annað starfslið. Myndi ég ráða Styrmi Gunnarsson, Hannes Hólmstein, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur eða Ingu Jónu Þórðardóttur sem ritstjóra? Eða Kjartan Gunnarsson sem framkvæmdastjóra? Að sjálfsögðu ekki. Ég myndi ekki ráða hægri mann til að ritstýra vinstri sinnuðu blaði, ekki frekar en Árvakur myndi ráða Steingrím J. og Ögmund til að ritstýra Mogganum. Þetta skilja allir. Ég myndi segja ritstjóranum að „misnota” blaðið alveg miskunnarlaust gegn...

15. Október 2005

UM AFSTÖÐU TIL HUNDAHALDS

Ég var að velta fyrir mér hvar flokkurinn stendur varðandi hundahald í Reykjavík. Ég og fleiri hundaeigendur erum mikið að velta þessum málum fyrir okkur vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Ummæli Stefáns Jóns frá síðasta vetri eru mörgum hundaeigandanum minnisstæð. Sjá hér ...
Erla Hlyns

15. Október 2005

UM DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIMILI ALDRAÐRA: RÉTT SKAL VERA RÉTT

...Ég velti því fyrir mér hvort Morgunblaðið ætlaði að láta hér við sitja. Svo reyndist ekki og létti mér við það að sjá prýðilegt viðtal við Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóra á Grund í Morgunblaðinu sl. föstdag. Hvers vegna skyldi mér hafa létt? Vegna þess að það er orðið leiðigjarnt að fjölmiðlar hirði ekki um sannleiksgildi yfirlýsinga talsmanna mismunandi hagsmunaaðila. Ég leyfi mér að fullyrða að iðulega er ráðist í ýmsar framkvæmdir og skipulagsbreytingar án þess að málavextir séu kannaðir - eða öllu heldur, vegna þess að málavextir hafa ekki verið kannaðir til hlítar. Menn halda einfaldlega með tilteknum málstað eða tilteknum málsaðilum. Það hlýtur að vera hlutverk fjölmiðla að leiða fram staðreyndir í hverju máli. Þess vegna þótti mér gott að þetta mál yrði ekki skilið eftir með mörgum spurningum ósvöruðum og jafnvel röngum og villandi yfirlýsingum. Rétt skal vera rétt! Ég hvet alla áhugamenn um þetta málefni að...

14. Október 2005

ÞAR HITTI SKRATTINN ÖMMU SÍNA


Baugur og ónefndur brátt verða kvitt
og barátta þeirra mun dvína
því að andskotinn sjálfur hefur nú hitt
hina gráðugu ömmu sína.

Einar Guðmundsson

12. Október 2005

20% ÁLAGSGREIÐSLUR FYRIR DEKURVIÐTÖL?

Ég ákvað að skrifa þér þegar ég heyrði það í fréttum að Halldór Ásgrímsson væri farinn að halda mánaðarlega fréttamannafundi, bara svona um allt og ekkert. Þetta er víst siður í útlöndum hjá stóru köllunum eins og Bush og Blair og þeim. Ósköp held ég nú að fréttamennirnir séu fegnir að þetta er þó ekki nema einu sinni í mánuði því varla eru þetta miklar skemmtisamkomur. Annars hélt ég að ráðherrarnir og allra síst forsætisráðherra þyrftu ekki að boða fréttamenn til sín sérstaklega. Ég sé ekki annað en þeir baði sig stanslaust í fjölmiðlasviðsljósinu og fái endalaus dekurviðtöl í kastljósþáttunum. Ég man ekki betur en ég hafi...
Sveinbjörg    

12. Október 2005

TIL ÞEIRRA SEM BERA ÁBYRGÐ Á BIRNI OG HALLDÓRI

Setja má spurningarmerki við viðbrögð forsætisráðherra ekki síður en við viðbrögð dómsmálaráðherra eftir úrskurð Hæstaréttar í Baugsmálinu. Björn dómsmálaráðherra lýsti því yfir að dómskerfið hefði ekki sagt sitt síðasta orð í málinu og lögheimildir væru til þess að ákæruvaldið héldi málinu til streitu. Þetta vakti hörð viðbrögð enda mátti túlka yfirlýsingu ráðherrans sem afskipti handhafa framkvæmdavalds af dómsvaldinu. Út af þessu varð að vonum hvellur á Alþingi í upphafi þingfundar í gær.
Ekki tók betra við þegar leið á daginn. Þá boðaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra til fréttamannafundar þar sem hann hóf að...

11. Október 2005

EINKAVÆÐINGARFJÁRLÖGIN

..Nú var úr vöndu að ráða fyrir ríkisstjórn sem staðráðin var í því að hunsa þjóðarviljann. Eftir nokkra yfirlegu var brugðið á það ráð að búa til sérstök Einkavæðingarfjárlög um ráðstöfun símasilfursins. Í Einkavæðingarfjárlögunum skyldi aðeins vera að finna vinsæl mál, engin kaup á sæti í öryggisráði SÞ þar, umdeildar fjárveitingar til NATÓ eða annarra mála sem lítt eru til vinsælda fallin. Slíkt skyldi vera í hinum hefðbundnu fjárlögum. Í Einkavæðingarfjárlögunum ætti aðeins að vera sólskin og gleði. Stjórnarmeirihlutinn tók að sjálfsögðu bakföll af hrifningu og einskærri ánægju yfir gjafmildi ríkisstjórnarinnar. Margir stjórnarandstöðumenn bitu einnig á agnið og fóru að ræða einstaka efnisþætti fumvarpsins, þar á meðal fjárveitingar þingsins á þarnæsta kjörtímabili! Þannig var ástandið innan veggja Alþingis í gær...

11. Október 2005

Kristján Hreinsson skrifar: HÖNDIN ER BÓLGIN OG BLÁ

Allt frá þeim degi er Jón Ásgeir Jóhannesson neitaði að greiða tíund í sjóði Sjálfstæðisflokksins, hefur fyrirtækið Baugur verið í sóttkví Davíðs Oddssonar. Smithættan var talin svo mikil að öllu var fórnað til að koma í veg fyrir þann faraldur sem út gat brotist. Baugur rann af fingri blárrar handar, sjúklegur farsi var farinn af stað og eitthvað varð til bragðs að taka. Forsöguna þarf að rekja alltaf annað slagið svo þjóðin sofni ekki á verði. En aðalatriðin eru örfá, um leið og þau eru öll afar mikils virði. Davíð Oddsson, eða hvað hann nú heitir sá ónefndi maður, vissi um ráðabrugg Jóns Geralds, þegar upp kom hið sérkennilega mútumál...Og það er ábyggilega ekkert annað en tilviljun að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skuli halda því fram að yfirvöld dómsmála hafi ekki sagt sitt síðasta í Baugsmálinu. Ef einhver maður er alvarlega innvígður í Sjálfstæðisflokkinn, þá er það Björn Bjarnason og hann veit eflaust hvað er hægt að gera í stöðunni...

11. Október 2005

BAUGUR OG SAMFÉLAGIÐ

Jón Ásgeir Jóhannesson mætti í viðtal á Stöð 2 í kjölfar úrskurðar Hæstaréttar sem vísaði öllum ákæruatriðunum í Baugsmálinu frá nema átta – og er það sem eftir stendur einna helst meint brot á tollalögum vegna innflutnings á fáeinum bifreiðum og kannski einum sláttuvélartraktor, ef ég man rétt. Jón Ásgeir var yfirvegaður í viðtalinu, já svo yfirvegaður var hann á þessum ágæta degi að hann var ekki einu sinni tilkippilegur í að tjá sig um æskilega brottrekstra og hagræðingu hjá lögreglunni sem hann hefur þó haft miklar skoðanir á að undanförnu. Margboðað skaðabótamál Baugs á hendur íslenska ríkinu bar örlítið á góma í viðtalinu en einnig í því máli var Jón varkár. Hann vildi ekki nefna neinar upphæðir, ekki td. hvort milljarðarnir sem hugsanlega yrðu sóttir í greipar ríkissjóðs yrðu einungis 5 eða kannski jafnvel 40. Á hinn bóginn upplýsti hann að öll mundi skaðabótasumman renna...
Þjóðólfur

10. Október 2005

MUN MORGUNBLAÐIÐ SJÁ LJÓSIÐ?

...Ég vil fá að vita afdráttarlaust hvort standi til að starfrækja hér Ríkisútvarp eða markaðsvætt hlutafélag eins og mér skilst hinn nýi þulur á fréttastofu Sjónvarps hvetji til, við mikinn fögnuð í Valhöll. Ef þetta yrði ofan á, hvað þá? Gæti það gerst að gegn 365 Daga samsteypunni yrði mynduð ný samsteypa Símans, Morgunblaðsins og RÚV hf.? Ekki þætti mér þetta sérlega eftirsóknarvert. Jafnvel þótt samsteypurnar yrðu tvær, þá yrði það penigavaldið – hinir nýju valdsmenn – sem öllu réðu.  Á Íslandi hefur peningavaldið stóreflst á allra síðustu árum. Fjölmiðlasamsteypur eru bara ein grein af þessum mikla auðvaldsmeið, samþjöppuðu peningaveldi sem vill sölsa allt samfélagið undir sig, fjölmiðlana, fjármálastofnanir, rafmagnið og veitukerfið, heilbrigðis- og menntakerfið. Það er til fær leið til að komast hjá hringamyndun. Og hún er þessi...

10. Október 2005

FRÉTTIR ÚR KAUPHÖLLINNI

Ég sæki mikið inn á heimasíðu Kauphallar Íslands mér til skemmtunar og fróðleiks. Þar má finna fregnir af flóknum málum sem ekki er alltaf auðvelt að skilja en með skýrri og skorinorðri framsetningu renna margslungnir innviðir viðskiptalífsins ofan í mann eins og sykurlegnar pönnukökur. Ég vil t.d. benda á eftirfarandi tilkynningu um fyrirhugaðan flutning á eignarhaldi, sem birtist á vefnum sl. föstudag, nánar tiltekið kl. 17:10:20. Tilkynningin þessi er gott dæmi um þann tærleika í framsetningu sem svífur yfir vötnunum á kauphallarvefnum...
Þjóðólfur

9. Október 2005

UM KONUR OG KARLA Í FÆÐINGARORLOFI

22. september síðastliðinn var viðtal við þig sýnt í fjölmiðlum, þess efnis að feður hefðu ekki jafnan rétt á við mæður að sækja styrki úr Fæðingarorlofssjóði. Allar þær lagagerðir sem ég hef lesið benda til þess að kynin hafi jafnan rétt til styrkstöku. Gætir þú kannski frætt mig um þetta mál...? 
Brynja Halldórsdóttir

6. Október 2005

VÍSA VARÐ TIL

...Af þessum sökum fæddist vísa sem fjallar um það hversu illa Dóri sést...

Af auðnu hljóta ekki jafnt
allir landsins feður,
já, víst er æði vandasamt
að vera illa séður.
Kristján Hreinsson

5. Október 2005

EINKAREKIN HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA DÝRARI OG RANGLÁTARI

Bæklingur BSRB með erindi sænska fræðimannsins Görans Dahlgrens, Opinber eða einkarekin heilbrigðisþjónusta?, hefur vakið verðskuldaða athygli. Í bæklingnum er á skýran og fagmannlegan hátt fjallað um kosti og galla mismunandi rekstrarfyrirkomulags i heilbrigðisþjónustunni. Niðurstöður Dahlgrens eru mjög afdráttarlausar og á þá lund að einkarekin heilbrigðisþjónusta sé dýrari fyrir skattborgarann og óhagkvæmari fyrir samfélagið í heild sinni en heilbrigðisþjónusta rekin af opinberum aðilum. Dahlgren segir ekki vafa leika á því að einkarekstur aukin á mismunun og komi sérstaklega í koll tekjulágu fólki. Niðurstöður sínar styður Dahlgren með rannsóknum og óvéfengjanlegum staðreyndum.
Dahlgren starfar nú sem gestaprófessor við háskólann í Liverpool í Englandi og er jafnframt ráðgjafi heilbrigðisráðherra víða um heim. Í formála að fyrrnefndum bæklingi BSRB, segir m.a.um þennan virta fræðimann...

5. Október 2005

GEFÐU ÞJÓÐÓLFI FRÍ

...Ótrúlegt finnst mér langlundargeð þitt að birta nánast upp á hvern einasta dag skrif nafnleysingjans Þjóðólfs eins og þau eru nú yfirleitt ósmekkleg og leiðinleg. Veit ég að hér tala ég fyrir munn margra. Eins ágæt og þín heimasíða er þá held ég að svona skrif sem þessi nafnleysingi ástundar og tekin eru til birtingar fæli fólk frá síðunni og þar með frá þeim athyglisverðu greinum sem þar er oft að finna. Í Mbl. las ég nýlega ágæta grein eftir þig þar sem tjáningafrelsi, rit- og prentfrelsi kemur ma. við sögu. Var ég málflutningi þínum þar í einu og öllu sammála. Hins vegar finnst mér nafnleysinginn Þjóðólfur oftast stíga langt fram yfir þær skynsamlegu markalínur sem þú dregur...
Helga K. Gunnarsdóttir

4. Október 2005

HELGAR TILGANGURINN MEÐALIÐ?

Birtist í Morgunblaðinu 03.10.05
Í skrifum Staksteina Morgunblaðsins fyrir fáeinum dögum er því hafnað að sömu lögmál gildi um birtingu stolinna bréfa íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi á sjöunda áratug síðustu aldar, í svokallaðri SÍA skýrslu, annars vegar og hins vegar um birtingu "illa fengins" tölvupósts, sem nú birtist í Fréttablaðinu og fleiri miðlum, um samskipti manna úr innsta valdakjarna Sjálfstæðisflokksins. SÍA skýrslurnar hafi verið birtar á stríðstímum: "Það var að vísu ekki heitt stríð heldur kalt en stríð engu að síður. Í stríði gilda önnur lögmál og aðrar reglur en á friðartímum."  Staksteinahöfundur minnir síðan á njósnastarfsemi stórveldanna hér á landi og annars staðar á þessum tíma og kemst að þeirri niðurstöðu að sá tilgangur að kveða niður kúgun kommúnismans hafi réttlætt birtingu bréfanna.

3. Október 2005

HVERT LIGGUR ÞÍN LEIÐ DÓRI? HVAÐ SEGIR TÖLVUPÓSTURINN?

...Og Davíð er, sem kunnugt er, altmuligmann af guðs náð og Þorsteinn ætlaði á sínum tíma að leggja stund á sagnfræði, og taldi sig raunar gera það, en lauk lögfræðiprófi fyrir einhvern  misskilning. Og það er fleira í pípunum ef marka má Tölvupóstinn sem birtir í morgun bréf frá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni til KG (sem blaðið fullyrðir að sé Kjartan Gunnarsson) og er það svohljóðandi...
Sending frá Þjóðólfi

2. Október 2005

HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA VERÐI SKIPULÖGÐ AF ÞEKKINGU OG REYNSLU

Birtist í Morgunblaðinu 01.10.05
Á vegum ríkisstjórnarinnar fer nú fram stefnumótunarvinna um framtíð heilbrigðisþjónustunnar. Innan heilbrigðiskerfisins er einnig stöðug gerjun og má segja að þar sé allt á stöðugri hreyfingu. Umræðan um heilbrigðisþjónustuna, hér á landi sem annars staðar, er mjög hagsmunatengd, enda eru heilbrigðismál einn stærsti útgjaldaliður hverrar þjóðar. Þeir sem vilja hagnast á heilbrigðisþjónustunni, bæði fjármálamenn og ýmsar heilbrigðisstéttir, þrýsta mjög á um að hún verði markaðsvædd. Hafa þessir aðilar haft talsverðan árangur af erfiði sínu og hefur heilbrigðisþjónustan smám saman verið að þokast inn á markaðstorgið.

2. Október 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: EFTIRMÆLI

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor við Háskóla Íslands hefur orðið að breyta hefðbundnum lofgreinum sínum um Davíð Oddsson í eftirmæli...Og hvað situr svo þjóðin uppi með núna? Jú nokkurnveginn þetta: Sömu aðilar – Baugur auðvitað – ráða ekki bara mörgum sjónvarpsstöðvum, blöðum og tímaritum – þeir ráða líka fjarskiptafyrirtæki og tölvuþjónustu (fyrir utan allt annað). Afleiðingin er sú að nú er komin upp ný tegund af tortryggni í samfélaginu. Hvernig stendur á því að tölvupóstur sem fer í gegnum netþjónustu hjá móðurfyrirtæki Fréttablaðsins lendir inná ritstjórn blaðsins? Og hvernig stendur á því að framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins er á fundi með ritsjóra Morgunblaðsins til að leiðbeina um val á lögfræðingi í málaferlum gegn Baugi? Niðurstaðan er þessi...

30. September 2005

HVORIR ERU HÆGRI SINNAÐRI, TALSMENN SAMFYLKINGAR EÐA SJÁLFSTÆÐISFLOKKS?

Varaformaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, skrifar grein í Morgunblaðið 29. september um málefni sem hann telur brýnt að taka á nú um stundir. Fyrirsögnin er lýsandi um baráttumál varaformannsins: "AUKUM VÆGI EINKAREKSTURS Í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU"... Getur verið að talsmenn Samfylkingarinnar telji það vera til vinsælda fallið á 21. öldinni, að gerast hægri sinnaðri en hægri vængur Sjálfstæðisflokksins? Menn hljóta að velta því fyrir sér, eftir lestur þessarar greinar varaformanns Samfylkingarinnar...

30. September 2005

DAVÍÐ IN MEMORIAN

Við á Snotru höfum verið að ræða hvort Davíð Oddsson verði ekki settur í flokk “frelsishetjanna” Thatcers og Reagans. Öll eiga þau það sameiginlegt að auka frelsi hinna ríku til að kúga þá fátæku og gera þá ríku ríkari, selja eigur fólksins til þess að hægt verði að selja okkur þær aftur. (Járnbrautir, raforkurkefi banka og síma).
Eftir sitjum við með lág laun og fátækt. 100 þúsund kr. laun standa ekki undir kostnaði við húsnæði, klæði og fæði, hvað þá annað. Til þess að lifa á verkafólk ekki annarra kosta völ en vinna óhóflega yfirvinnu. Á meðan er ekki hægt að opna blað nema fjallað sé um ...
Runki frá Snotru  

30. September 2005

ÚR TÖLVUPÓSTINUM Í MORGUN

Jón ritstjóri Tölvupóstsins lumar á ýmsu athyglisverðu í blaðinu í dag. Hann hefur gefið mér góðfúslegt leyfi til að nýta mér efnið að vild enda er hann mágur minn og hef ég svo sem ýmislegt á hann ef hann lætur ekki að stjórn. Ég vil leyfa lesendum síðunnar að gægjast í bréfið “Amma skrifar Árna sínum” sem hann mágur minn veiddi í netið í gær og áframsendi mér:..
Sending frá Þjóðólfi

28. September 2005

TÖLVUPÓSTURINN - NÝTT DAGBLAÐ MEÐ NÝJAR OG BREYTTAR ÁHERSLUR

Ánægjuleg viðbót við íslenska fjölmiðlaflóru barst inn um bréfalúguna hjá mér í morgun. Þetta er auðvitað dagblaðið Tölvupósturinn en ritstjóri og jafnframt eini starfsmaður þess er hinn þjóðkunni doktor Jón Samúelsson ... Eftir þennan lestur varð mér strax hugsað til þess að ekki væri nú ástandið svona skítt hjá mér og mínum. ...Uppskriftin að þessu nýja blaði er að mínum dómi afar vel heppnuð og innihaldið hefur fyrst og síðast góð áhrif á lesendur og ég held einnig samfélag okkar í heild. Og ekki veitir nú af á þessum ...
Tómas Adolf Treholt

25. September 2005

LANDSVIRKJUN MISNOTI EKKI AÐSTÖÐU SÍNA Í SKÓLUM

...Nú vil ég taka það skýrt fram að fræðsla um orku og orkumál á að mínu mati heima í skólum og beinist gagnrýni mín ekki á nokkurn hátt að slíkri fræðslu og því starfi sem unnið hefur verið til þess að efla þessa fræðslu. Þá finnst mér vel við hæfi að nýta þá þekkingu sem til er hjá Landsvirkjun um raforkumál í samstarfi við skólana. Almennt er ég því fylgjandi að skólarnir séu opnir fyrir umhverfi sínu. Hér þarf hins vegar að sýna varkárni og mikla yfirvegun. Ég tel það ekki bera vott um góða dómgreind af hálfu Landsvirkjunar að reyna með skipulegum hætti að vinna að því innan veggja skólanna að fá skólabörnin til að koma að vígslu umdeildustu virkjunar Íslandssögunnar. Það ber heldur ekki vott um tillitssemi gagnvart þeim...

25. September 2005

HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, VÍST ER ÞÖRF Á STÖKKBREYTINGU!

Birtist í Morgunblaðinu 24.09.05.
...Heilbrigðisráðherra segir hins vegar engar "stökkbreytingar" á borðinu, "alla vega ekki á næstu fjárlögum..." Nú spyr ég, hvers vegna ekki? Hvers vegna eru menn til dæmis reiðubúnir að setja fleiri hundruð milljónir til að kaupa sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og ausa fé í ýmis umdeild verkefni en vanrækja síðan elstu kynslóðina þannig að margt fólk fái ekki búið við mannréttindi á lokaskeiði ævinnar. Þetta er röng forgangsröðun og vil ég taka undir með hjúkrunarforstjóra Sóltúns að lyfta beri ...

22. September 2005

ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR SÝNI AÐGÁT

...Áleitin spurning nú er hvort ekki væri skynsamlegast af Íbúðalánasjóði að vinda ofan af þessari áhættustefnu í stað þess að auka hraðann í rúllettunni með því að færa út kvíarnar á lánamarkaði. Þetta segi ég sem mjög einarður stuðningsmaður Íbúðalánasjóðs. Ég tel hann vera eina af undirstöðustofnunum velferðarþjóðfélagsins. Hann er fjöregg sem við þurfum að gæta vel. Í rauninni geta bankarnir, og þar með einnig KB banki, trútt um talað. Í sameiningu hafa þeir staðið fyrir samfelldri aðför að Íbúðalánasjóði. Þeir hafa reynt að...

21. September 2005

LANDSVIRKJUN VILL VIRKJA SKÓLABÖRN

Landsvirkjun hefur sent skólastjórnendum í landinu bréf þar sem skýrt er frá því að ætlunin sé að skólabörn taki þátt í að leggja hornstein að Kárahnjúkavirkjun, umdeildustu virkjun í sögu þjóðarinnar. Óskað er eftir samstarfi við skólana um að virkja börnin í samkeppni um að komast í hóp þeirra sem fá að vera með hópi þeirra sem leggja hornsteininn að virkjuninni, væntanlega Valgerði iðnaðarráðherra, Friðriki forstjóra og fulltrúa Impregilo. Í bréfi Landsvirkjunar segir m.a... Landsvirkjun ber að draga bréf sitt til skólanna til baka og láta iðnaðarráðherrann og forstjórana tvo, hinn íslenska og hinn ítalska...

19. September 2005

iPod Í LAUNAUMSLAGIÐ

Sæll Ögmundur.  Þú skrifar á heimasíðu þína þann 13.9.sl grein með yfirskriftinni ÞAÐ ÞARF AÐ JAFNA KJÖRIN Í LANDINU. Ekki efast ég um vilja þinn til þess að vinna að því og ég er sammála þér í því að hátt gengi krónunar hefur ekki skilað sér að fullu í lægra vöruverði, enda kröfur um háa arðsemi til eiganda hafðar í fyrirrúmi. 
Sigurbjörn Halldórsson

17. September 2005

ÖRYGGISRÁÐIÐ – HVAÐ SKAL GERA?

Erfitt er að átta sig á því hvað verður ofan á varðandi tilraunir Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra að kaupa fyrir Ísland sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra ítrekaði áhuga sinn á sætinu í ræðu sem hann flutti á Allsherjarþingi SÞ. Uppi varð fótur og fit hér heima enda málið mjög umdeilt sem kunnugt er. Um þetta er eftirfarandi haft eftir Guðna Ágústssyni, landbúnaðarráðherra og varaformanni Framsóknarflokksins í Morgunblaðinu í dag...Að lokum ein lítil tillaga: Fari svo að Halldór Ásgrímsson hafi sitt fram og haldi þessu máli til streitu, væri ekki hugsandi að ...

15. September 2005

MÚTUR VIL ÉG EKKI Í MINN VASA

Það er fallegt af þér Ögmundur að bera blak af þeim aðilum sem eru að fá sölupeninginn af Símanum og eru flaðrandi upp um ríkisstjórnina af ánægju, þakklæti, bukti og beygju. Þú segir hér á síðunni...Ég áfellist þennan mannskap alveg hiklaust og er þér fullkomlega ósammála að þessu leyti þótt ég sé eiginlega sammála þér um allt!. Mér verður hreinlega illt af því að horfa á þetta flaður í garð kapítalistanna sem eru að útdeila stolnum auði. Sjálf er ég öryrki og geðfötluð og vil ekki sjá einseyring af mútufé ríkisstjórnarinnar....
Gunna

15. September 2005

ÁLFAR OG ÁLVER – HVER ER MUNURINN FYRIR LAND OG ÞJÓÐ?

Á sínum tíma, er ég var barn að aldri, trúði ég á álfa. Hvernig átti heldur annað að vera, ég sá þá með eigin augum út um allar koppagrundir, í hverjum hól og kletti, já í hverjum einasta grjóthnullungi á æskustöðvum mínum vestur í Trékyllisvík. Lengi vel velti ég því ekkert fyrir mér hvað álfarnir hefðu fyrir stafni til að hafa í sig og á. Ég sá þá aldrei gera neitt af viti, eins og sagt var til sveita í gamla daga, ég gat ekki betur séð en allan liðlangan daginn væru þeir við alls kyns leiki og annað sprell. Það var fyrst í kringum tíu ára aldurinn að ég spurði hann föður minn hvað allir þessir álfar hefðu sér til viðurværis. Drykklanga stund hugsaði hann sig um og sagði svo...
Þorsteinn Þjóðólfsson,
fyrrverandi sjómaður

14. September 2005

Baldur Andrésson skrifar: UM ERKIBRASKARA BOÐSKAP

Erkibraskarar Íslands eiga nú von á nýjum páfa í Vatíkan sitt, Seðlabankann.
Páfinn er forn og nýr þjónn spákaupmanna, fyrrum yfirkardínáli í söfnuði mammonstrúar. Hann er reyndur þjónn og lúinn, en samt til nokkurs nýtur enn í þágu trúar sinnar, telur hann sjálfur a.m.k. Hann mætir til leiks borinn á þeim gullstól, sem hann sjálfur smeið. Af þessu tilefni eru nú messur haldnar og safnaðarfundir peningajöfra. Orð daganna eru harmagrátur yfir verðbólgubálinu. Alþýðu er hótað með helvítisvist í efnhagashruni ef hún orðar óskir um þokkaleg launakjör. Sérstaklega er orðum beint til þeirra lægstlaunuðu. Þeir munu brenna sig fyrst á græðgi  sinni segja...

14. September 2005

MORGUNBLAÐIÐ LOFAR ANDSTÆÐING "ATKVÆÐAVÆNNA VERKEFNA"

Hinn hægri sinnaði stjórnarflokkur Japans, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, vann sigur í nýafstöðnum þingkosningum í landinu. Forsætisráðherrann, formaður flokksins, Junichiro Koizumi, hrósar sigiri. Það gerir Morgunblaðið á Íslandi líka. Það gleðst yfir sigri japanskra peningafrjálshyggjumanna. Morgunblaðinu er að sjálfsögðu frjálst að fagna þessari niðurstöðu. Ég staðnæmdist hins vegar við orðalag Morgunblaðsleiðarans í gær, sem fjallar um...

14. September 2005

RÍKISSTJÓRNIN REYNIR AÐ KAUPA SÉR VINSÆLDIR

Birtist í Morgunblaðinu 13.09.05.
...Veltufé frá rekstri var 6.800 millj. kr. Þarna er því geysileg fjármunamyndun á ferðinni og hrikalegt til þess að hugsa að ríkisstjórnin skuli hafa tekið frá þjóðinni slíka gullkú...Ég efast um að nokkur maður trúi því að kaupendur Símans séu í góðgerðarstarfsemi; þeir hafi einfaldlega ekkert haft við 66,7 milljarða að gera og hafi viljað setja þá í uppbyggingu í þágu samfélagsins? Nei, þeir ætla að græða á Símanum. Auðvitað ætla þeir að ná hverri einustu krónu til baka frá notendum þjónustunnar og gott betur. Við munum borga ...
 

13. September 2005

ÞAÐ ÞARF AÐ JAFNA KJÖRIN Í LANDINU

Í fjölmiðlum er nú fjallað um verðbólguna sem komin er framúr verðbólgumarkmiðum Seðlabankans en þau lágu til grundvallar kjarasamningum bæði á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera. Fulltrúar Samtaka atvinnurekenda segja að vel komi til greina af þeirra hálfu að segja upp kjarasamningum og í Fréttablaðinu er flennistór fyrirsögn yfir viðtölum við fulltrúa þeirra og fjármálasérfræðinga: Kaupmátturinn í landinu er of hár. Það má til sanns vegar færa að sé því haldið fram að ef krónan sé of hátt skráð miðað við þarfir íslenskra framleiðsluatvinnuvega þá sé jafnframt verið að segja að kaupmáttur þjóðarinnar sem heildar sé of mikill.
Hér þarf þó að gera tvo mjög mikilvæga fyrirvara...

11. September 2005

BSRB OG HVÍTA BANDIÐ


Birtist í Morgunblaðinu 10.09.05.
...Á heiminum öllum hvíla því siðferðilegar skyldur að vinna markvisst að úrbótum. Ört vaxandi heimshreyfing verkalýðssamtaka og annarra almannasamtaka, hefur myndað breiðfylkingu til að örva umræðu og knýja á um markvissar úrbætur og hafa Samtök starfsfólks í almannaþjónustu, Public Services International, PSI, sem BSRB á aðild að, staðið mjög framarlega í þessari baráttu. Þessi alheimsherferð gegn fátækt kallast á ensku Global Call to Action Against Poverty, en  hefur verið kölluð „Brúum bilið“ á íslensku...

9. September 2005

UM KRÓNUNA, EVRUNA, GENGIÐ OG RÍKISSTJÓRNINA

Fyrir fáeinum dögum birtist áhugavert lesendabréf hér á síðunni frá Þráni þar sem hann fjallar um íslensku krónuna og segir að hún sé hætt að veita réttar upplýsingar um stöðu hagkerfisins. Hann segir að nær væri fyrir okkur að taka upp Evruna. Þráinn segir m.a.: "Sjálfstæður gjaldmiðill í örsmáu hagkerfi elur á spillingu og spákaupmennsku ...En hvers vegna skyldi krónan vera sterk? Það er vegna þess að pumpað er fjármagni inn í hagkerfið vegna stóriðjuframkvæmda. Eftirspurn eftir krónunni styrkir hana svo mjög að hún er hætt að gefa nokkra raunhæfa mynd af íslensku atvinnulífi. Þetta er rétt hjá Þráni og á þetta hef ég einnig bent. Afurðir okkar hætta hreinlega að seljast og ferðamenn hætta að hafa efni á að koma til landsins ef fer fram sem horfir. En hvað skyldi nú ríkisstjórnin gera við þessar aðstæður...?

8. September 2005

HÍ, SAMTÖK VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU OG LANDSBANKI FJALLA UM “HÆFILEIKAFÓLK”

...Nú þurfa allir þeir sem sjá í gegnum samtryggingartal hátekjufólksins, sem súrrar sig saman í að skilgreina sig sjálft sem “hæfileikafólk” að sýna fram á hve innantómt þetta tal er. Fólk sem höndlar með peninga er komið með fráleitar hugmyndir um eigið gildi. Hvers á sjúkraliðinn að gjalda, sjómaðurinn, lögreglumaðurinn, smiðurinn, hafnsögumaðurinn...? Hvar væru þeir staddir spekingarnir við Viðskiptadeild HÍ eða í Landsbankanum ef þessa fólks nyti ekki við? Og skyldi það almennt vera hæfileikasnautt...?

8. September 2005

NAGLASÚPA NÝRRA TÍMA

Birtist í Morgunpósti VG 07.09.05.
...
Það þótti horfa til framfara á sínum tíma að færa völdin frá aðli og auðmönnum til almennings og láta  lýðræðislega kjörna fulltrúa ráðstafa sköttum, hvort sem þeir heita tekjuskattar, gatnagerðargjöld eða annað. Í Mosfellsbæ sýnist mér yfirvöld daðra við fortíðina. Nú stendur nefnilega til að afnema skattana og láta ákvarðanir í hendur þeirra sem hafa eignarhald á landi eða búa yfir digrum sjóðum. Afturhaldsmenn fagna þessu eflaust og þeir sem harðast ganga fram í peningafrjálshyggju. Aðrir eru flestir, hygg ég...

7. September 2005

EINN TALAR ÚT, ANNAR Í SUÐUR

Birtist í Blaðinu 07.09.05
Hvað skyldi Björgvin G. Guðmundsson nú segja um flokksfélaga sinn Stefán J. Hafstein og yfirlýsingar hans um hugsanlegt samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en í viðtali við Blaðið viðraði hann sjónarmið sín nýlega undir fyrirsögninni, "Sé samstarfsmöguleika við Sjálfstæðismenn". Þar er Stefán Jón, sem gjarnan vill verða borgarstjóri, spurður hvort hann sjái fyrir sér samstarf við "sjálfstæðismenn, jafnvel minnihlutastjórn?".  Stefán Jón kveður vera flöt á slíku og að... Mér sýnist hið pólitíska landakort vera að teiknast nokkuð skýrt upp. Mér sýnist margt benda til þess að valkostir kjósenda muni verða nokkuð skýrir í komandi borgarstjórnarkosningum. Þar þarf enginn að velkjast í vafa um vilja VG til að efla samfélagsþjónustuna, einvörðungu  með hagsmuni borgarbúa í huga. En ég er hræddur um að ...

3. September 2005

KRÓNAN HÆTT AÐ VEITA UPPLÝSINGAR UM STÖÐU HAGKERFISINS

Ágætis grein um fjármál og vexti frá þér. Þessi vandamál væru ekki þau sömu ef við hefðum vit á að vera með í Evrunni. Röksemdir fyrir sjálfstæðum gjaldmiðli eru fyrst og fremt þær að gengi jafni kjörin, þeas. ef viðskiptakjör versna þá lækkar gengið. Þá minnkar kaupmáttur allra en í staðinn minnkar hættan á atvinnuleysi. Þessi kenning er rétt ef um er að ræða sveiflur 10% plús eða mínus. En hagkerfislegt sjálfstæði getur líka farið illa með þjóðarhag. Ef sveiflurnar verða miklar (einsog nú er) er hætta á að heilu atvinnugreinarnar verði ósamkeppnisfærar og þá fáum við fjöldaatvinnuleysi, ekki bara sveiflukennt atvinnustig, einsog við fengjum ef við værum tengd við stóran gjaldmiðil. Markaður verður að vera stór til að virka og hægt er að "hijacka" litlu hagkerfi af tiltölulega fámennum hópi spákaupmanna...Ísland er að verða "Gambler´s Paradise" þar sem rekstrarreikningur
fyrirtækjanna skiptir engu máli...
Þráinn

3. September 2005

AÐSTAÐA HJÚKRUNARHEIMILA FYRIR ALDRAÐA VERÐI JÖFNUÐ!

Birtist í Morgunblaðinu 02.09.05
...Sannast sagna hefur það komið mér á óvart hve lítinn áhuga fjölmiðlar hafa sýnt því hróplega ranglæti og mismunun sem dvalarheimili aldraðra búa við, að ekki sé minnst á hagsmuni skattgreiðenda. Ég vil leggja ríka áherslu á að ég sé ekki ofsjónum yfir framlagi til þeirrar ágætu stofnunar sem Sóltún er, að því undanskyldu að sjálfsögðu, að skattfé, sem varið er til velferðarmála á að mínu mati ekki erindi í vasa fjárfesta. Mér svíður hins vegar að ekki sé búið eins vel að öðrum stofnunum hvað opinber fjárframlög snertir. Þetta misrétti má ekki líðast lengur. Þegar þetta hefur verið lagað verða fyrst komnar sanngjarnar forsendur fyrir samanburð af því tagi sem leiðarahöfundur Morgunblaðsins og Fréttastofa Sjónvarpsins hafa gert að umtalsefni...

2. September 2005

VERSLUNARRÁÐIÐ VILL LOKA NÝSKÖPUNARSJÓÐI

...Við nánari lestur á yfirlýsingu Verslunarráðsins kemur í ljós að hið sama er hér uppi á teningnum. Verslunarráðið er einfaldlega að hvetja til þess að ríkið afhendi fjármálastofnunum þá fjármuni til ráðstöfunar sem nú renna til Nýsköpunarsjóðs. Málatilbúnaður er því sambærilegur við aðförina að Íbúðalánasjóði. Það “er mikilvægt”, segir í yfirlýsingu Verslunarráðsins... Skyldi vandi Nýsköpunarsjóðs ekki fyrst og fremst vera sá að hann þurfi meira fjármagn. Ríkisstjórnin lætur, sem kunnugt er, nýsköpunarfjármagn renna ótæpilega til stuðnings fyrirtækjum sem hún telur þurfa aðstoðar við, Alcoa og annarra slíkra, en vanrækir hins vegar Nýsköpunarsjóð.
Þetta er vandinn: Hve Nýsköpunarsjóði  er þröngur stakkur skorinn af hálfu fjárveitingavaldsins. Sá vandi verður ekki leystur með því að...

1. September 2005

VERÐUR KANNSKI “LAUGARDAGSKVÖLD MEÐ VILLA” Í VETUR?

Það verður ekkert “Laugardagskvöld með Gísla Marteini” í sjónvarpinu í vetur, því miður fyrir okkur eldri borgarana sem áttum þar hauk í horni og gleðinnar fasta punkt í annars dapurlegri dagskrá Ríkissjónvarpsins.Gilli sækist nefnilega eftir því, enda þjóðþekktur orðinn af góðu einu, að verða borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Hann hefur því eðlilega lítinn tíma til að spjalla og sprella fyrir okkur gamla fólkið um hverja helgi...Geri ég það hér með að tillögu minni að keppinautur Gísla um borgarstjórastólinn, Vilhjálmur Þórður Vilhjálmsson, játi sig strax sigraðan og taki upp keflið hans Gilla í sjónvarpinu. Þá fengjum við gamla fólkið “Laugardagskvöld með Villa” og yrðum ekki svikin af þeirri skemmtun – það get ég fullyrt eftir löng og skemmtileg kynni við Vilhjálm allt frá...
Ari Guðmundsson á Grafarbakka

31. Ágúst 2005

ÍSLAND HAFT AÐ FÉÞÚFU

Fréttir sem nú berast úr fjármálalífinu hljóta að vekja þjóðina til umhugsunar um hvert stefnir í íslensku efnahagslífi. Vextir eru, sem kunnugt er, mjög háir hér á landi.....Þetta þýðir að fjármálamenn – erlendir og innlendir – taka peninga að láni þar sem vextir eru lágir og flytja þá til Íslands þar sem vextir eru háir....Þetta er í sjálfu sér ekki nýtt því á undanförnum misserum hefur verið dælt gífurlegu fjármagni erlendis frá inn í íslenskt efnahagskerfi. Það sem er nýtt er að fréttir berast nú af því að erlend verðbréfafyrirtæki eru farin að gefa út skuldabréf í íslenskum krónum. Um er að ræða 12 milljarða á aðeins örfáum dögum...Gengi krónunnar verður óraunhæf mæling á íslenskum framleiðsluatvinnuvegum. En í fréttum baðar viðskiptaráðherra sig í milljarðagróða banka. Valgerður Sverrisdóttir er tíður gestur í fjölmiðlum að lýsa yfir hve vel heppnuð aðgerð það var að markaðsvæða allt fjármálakerfið...Ég stóð alltaf í þeirri meiningu að ríkisstjórn ætti fyrst og fremst að hugsa um almannahag .....

30. Ágúst 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: VOND BYRJUN Á KOSNINGABARÁTTU

Fréttablaðið birti nýlega skoðanakönnun sem blaðið hafði látið gera og leiddi í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 9 borgarfulltrúa af 15 ef kosið yrði nú, Samfylkingin 5 og Vinstri grænir 1. Framsókn og Frjálslyndir yrðu úti í kuldanum. Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra þóttu þetta góð tíðindi fyrir Samfylkinguna (tók að sönnu fram að þau væru ekki jafn góð fyrir Reykvíkinga, hvað svo sem það nú merkir), og það sem meira var: Hún fullyrti að baráttan stæði milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Þegar ég sá þessi orð höfð eftir borgarstjóranum, þeim sama og talar niður til samherja sinna, sem geta hugsað sér að gegna starfinu, þá fannst mér ég vera kominn áratugi aftur í tímann...

30. Ágúst 2005

STJÓRNMÁLAFLOKKAR EIGA AÐ TALA SKÝRT

...Svo lengi sem stjórnmálaflokkar telja sig eiga sameiginlegan samnefnara í almennri pólitík, vilja t.d. leggja áherslu á félagslega þætti, gagnstætt  sjónarmiðum, sem byggja á módeli peningafrjálshyggju, eiga þeir tvímælalaust að lýsa því yfir að þeir ætli að starfa saman að loknum kosningum...Um þetta fjallar Helgi Guðmundsson í Frjálsum pennum hér á síðunni í dag. Hann vísar m.a. í það sem hann kallar norsku leiðina, og hvetur til þess að menn íhugi hana fyrir komandi kosningar í Reykjavík. Helgi segir m.a. : "Vitlegt upphaf kosningabaráttunnar fyrir R-listaflokkana væri að fara norsku leiðina, lýsa því yfir að þeir hyggðu á áframhaldandi samstarf þó þeir bjóði ekki fram saman eins og síðustu ár. Þær ættu að koma sér saman um ákveðin megin málefni sem þeir legðu áherslu á að vinna saman að. Kjósendur skilja vel að flokkarnir vilji spreyta sig einir – sjá hvernig þeir standa og semja svo á grundvelli þess styrks sem þeir fá í kosningunum. Umfram allt eiga flokkarnir að ganga hreint til verks við kjósendur, segja þeim að ekki standi til að taka upp sama makkið í borgarstjórn og gert er við myndun ríkisstjórna heldur þvert á móti...

30. Ágúst 2005

UM ÁBYRGÐ Í ATVUNNULÍFI OG SAMFÉLAGI

Birtist í Morgunblaðinu 29.08.05
...Gæti nú verið að Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður, hafi nokkuð til síns máls þegar hann spurði nýlega hvers vegna bankarnir lækkuðu ekki vexti og þjónustugjöld í ljósi gífurlegs hagnaðar?  Gæti þessi spurning ekki líka átt við á ýmsum öðrum sviðum í atvinnulífinu? Æskilegt væri að forsætisráðherra botni nú ræðu sína frá í júní og segi okkur hvort það sé virkilega vilji Framsóknarflokksins að færa auðmönnum þessa lands umboð sem áður hvíldi hjá lýðræðislega kjörnum fulltrúum þjóðarinnar þannig að Íslandi verði að öllu leyti stýrt "á forsendum fyrirtækjanna", eða auðvaldsins eins og það einhvern tímann var kallað? Er ekki heillavænlegara þegar allt kemur til alls, að fyrirtækin greiði skatta til samfélagsins og einbeiti sér að því að framleiða vöru og þjónustu á góðum kjörum...?

27. Ágúst 2005

Bergþóra Sigurðardóttir skrifar: NÁTTÚRA Á HEIMSVÍSU

...Mig langar að segja ykkur frá því hvernig annað eldfjallaland á annars konar plötuskilum nýtur sérstakrar virðingar. Eftirfarandi lýsing í lauslegri þýðingu er úr heimsminjaskrá UNESCO 1996. Til að gera ykkur forvitin sleppi ég staðarnöfnum." Eldfjöll landsins eru eitt af stórkostlegustu eldfjallasvæðum jarðar, þar sem bæði er um að ræða mörg eldfjöll á litlu svæði og mörg virk eldfjöll og einnig fjölbreytni jarðminja tengda eldstöðvum. Það eru fimm eldgosasvæði sem í sameiningu standa undir viðurkenningu landsins á heimsminjaskrá. Auk jarðfræðiþáttanna býr svæðið yfir sérstakri fegurð og fjölda villtra dýra." Árið 2001 var sjötta þjóðgarði landsins bætt við á heimsminjaskrá. Þar var lögð áhersla á "samspil gjósandi eldfjalla og jökla, sem mynda síbreytilegt og mjög fagurt landslag."  Þar er líka dalur kenndur við Geysi, annar stærsti hveradalur í heimi. Virku eldfjöllin eru ...

27. Ágúst 2005

GÁTA BERGÞÓRU OG SPURNING TIL OKKAR

Bergþóra Sigurðardóttr, læknir, birtir í dag athyglisverða grein hér á síðunni í dálkinum Frjálsir pennar. Greinin ber fyrirsögnina Náttúra á heimsvísu. Bergþóra vill greinilega vekja okkur til vitundar um þau verðmæti sem Ísland býr yfir.
Bergþóra setur fyrir okkur gátu, greinilega til að kveikja með okkur áhuga... 

25. Ágúst 2005

ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ AÐ STJÓRNVÖLD ÞURFI AÐ RÖKSTYÐJA STÓRIÐJUSTEFNUNA?

Í Viðskiptablaðinu í dag segir: "Fjárfestingar í stóriðju kosta gríðarlega fjármuni og er líklegt að þeim geti verið betur varið í þjóðfélaginu á öðrum sviðum". ..Sem kunnugt er birti greiningardeild KB banka álitsgerð nýlega í þessa veru. Stjórnarformaður Landsvirkjunar, Jóhannes Sigurgeirrson, lýsir því hins vegar yfir í fréttum í gær að greiningardeild KB banka sé á villigötum varðandi þjóðhagsleg áhrif álframleiðslunnar. Stjórnarformaðurinn staðhæfir án þess að færa rök fyrir máli sínu. Svona einsog við þekkjum í gegnum tíðina...Það er fráleitt að ráðamenn þjóðarinnar komist upp með að fjárfesta fyrir hundruð milljarða af skattfé án þess að færa ítarleg, eða yfirleitt einhver, rök fyrir stefnu sinni. Fjölmiðlar bera hér mikla ábyrgð. Jón Steinsson skrifar mjög umhugsunarverðan pistil á Deigluna (deiglan.com), þar sem hann gagnrýnir fjölmiðla fyrir að... 

24. Ágúst 2005

ÁSKORUN TIL FJÖLMIÐLA

Birtist í Morgunblaðinu 23.08.05
Hér á landi eru nú starfandi álver með 270 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Ef draumar Framsóknarflokksins verða að veruleika stefnir í að álframleiðslan verði 13-1400 þúsund tonn á ári. Með öðrum orðum, fari úr tvö hundruð og sjötíu þúsund tonnum í eina milljón og fjögur hundruð þúsund tonn. Ég tvítek tölurnar til þess að leggja áherslu á...Ég skora á fjölmiðla að fara í saumana á þessum málum. Það stefnir í að álframleiðsla verði uppistaðan í efnahagsframleiðslu hér á landi...án þess að Íslendingar fái nokkuð fyrir sinn snúð...Þarf ekki að stöðva fólk sem framkvæmir gegndarlaust  á kostnað skattborgarans án þess að hafa snefil af bisnissviti...?

23. Ágúst 2005

DALVÍKINGAR BJÓÐA ÞJÓÐINNI Í MAT EN TREYSTA SÉR EKKI AÐ ELDA OFAN Í BÖRNIN SÍN

...Í Bretlandi ánetjuðust stjórnvöld útboðshugsuninni fyrir fáeinum árum; töldu sig vera að ná hagstæðum samningum. Nú eru ríki og sveitarfélögin þar í landi að reyna að losa sig út úr þessum samningum því ...
Sú spurning gerist áleitin hvers vegna það færist í vöxt að opinberar stofnanir fara á útboðsmarkað með ýmsa þjónustu. Þetta hefur gerst í ræstingum og nú virðist stefnan einnig tekin á útboð með matseld. Ræstingar hafa verið boðnar út til að draga úr kostnaði og hefur þetta komið alvarlega niður á kjörum starfsfólksins, sem yfirleitt bjó ekki við góð kjör fyrir. Auðvitað á fólk í þessum störfum að búa við sams konar kjör og öryggi og...

22. Ágúst 2005

HVORT BERJAST SAMTÖK VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU FYRIR HAG VERSLUNAREIGENDA EÐA NEYTENDA?

Það er að vissu leyti aðdáunarvert að gefast ekki upp í baráttu fyrir málstað sinn. Að sjálfsögðu spillir ekki að málstaðurinn sé góður. Það verður því miður ekki sagt um málstað Samtaka verslunar og þjónustu sem nú eina ferðina enn hamast á nauðsyn þess að hefja sölu á áfengi í almennum verslunum. Í pistli frá samtökunum...Er þetta rétt? Hjá ÁTVR er hægt að fá keyptar nánast allar víntegundir sem framleiddar eru og er mikið álitamál hvort víða finnist verslanir erlendis með meira en tvö þúsund tegundir á boðstólum...Verslunareigendur hafa sagt mér að þeir myndu aldrei geta haft eins lága álagningu og ÁTVR nema þá með því að hafa eingöngu í boði vinsælustu tegundirnar...

19. Ágúst 2005

ÞÖRF Á VINSTRI STJÓRN

Ísland bráðvantar vinstri stjórn; ríkisstjórn sem af alefli beitir sér fyrir því að koma á jöfnuði í landinu og útrýma því misrétti sem fylgt hefur ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins frá því hann komst til valda árið 1991. Það er rétt sem Hrafnkell A. Jónsson, héraðsskjalavörður á Egilsstöðum og fyrrum verkalýðsforkólfur með meiru, segir í grein í Blaðinu 11. júlí sl., að "þær kynslóðir sem eru að vaxa úr grasi í dag hafa aldrei búið undir vinstri stjórn..." Eftirfarandi er líka eflaust rétt eftir haft hjá Björgvin Guðmundssyni, sem segir í upphafsorðum greinar á vísir.is, sem einnig birtist sem leiðari Fréttablaðsins 25. júlí sl...
Vandinn er sá að báðir reynast þessir ágætu menn, Hrafnkell og Björgvin, vafasamir sagnfræðingar og báðir komast þeir að mínu mati að röngum niðurstöðum...

18. Ágúst 2005

HAMAGANGUR Í HOLLANDI ÚT AF "VITRÆNNI HÖNNUN" = "INTELLIGENT DESIGN"

...Það var einmitt þetta trúarlega sjónarhorn sem hreif Van der Hoeven vísinda- og menntamálaráðherra Hollands, að hennar eigin sögn. Hún lýsti því yfir opinberlega í vor að hún hefði átt "stórkostlega merkilega" samræðu við fyrrnefndan Cees Dekker og í kjölfarið skrifaði hún eftirfarandi á heimasíðu sína: "Það sem sameinar Múhameðstrúarmenn, Gyðinga og Kristna er hugmyndin um skapara...Ef okkur tekst að sameina vísindamenn af mismunandi trúarbrögðum, mætti nýta það í skólum og í kennsluefni sem þar er kennt..." Í haust ætlar að Van der Hoeven, ráðherra, að halda seminar um Vitræna Hönnun í menntamálaráðuneytinu hollenska. Hollenskir þingmenn og vísindamenn vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið...

15. Ágúst 2005

AMERÍKUPISTILL

Í sumar dvaldi ég ásamt konu minni um nokkurra daga skeið í St. Paul og Minneapolis, "tvíburaborgunum" svonefndu í Minnesotaríki í Bandaríkjunum. Á þessum dögum fékk ég örlitla innsýn í ýmsa þætti í bandarísku þjóðlífi sem maður hefur ekki að staðaldri fyrir augunum. Ýmsir viðburðir sem að staðaldri eru í heimsfréttum þessa dagana fengu á sig skýrari, og í mínum huga skiljanlegri, mynd.
Auðvitað er ekki hægt að alhæfa um stórþjóð á við Bandaríkjamenn...Annað, og nokkuð sem kom þægilega á óvart, var almennt umburðarlyndi sem ég þóttist verða var við hjá fólki...Auðvitað er himinn og haf á milli þess besta og versta í bandarískri fjölmiðlun. Athygli flestra Evrópumanna vekur þó að ég held, hve þröngur sjóndeildarhringur bandarískra ljósvakamiðla almennt er...Enda þótt bandarísk yfirvöld dýrki ofbeldið og upp um húsveggi margra stórbygginga sé að finna lofgjörð og ákall til hernaðarhyggjunnar koma önnur skilaboð sums staðar úr grasrótinni...Sú pólitíska umræða sem vakti athygli mína mest í Bandaríkjunum snerist um trúmál og vísindi...Um þessa þróun hefur nokkuð verið ritað. Mest áberandi er umræðan í vísindatímaritum, sértaklega Science, einu virtasta vísindariti Bandaríkjanna, en í bandarískum blöðum er umræðan einnig áberandi...

15. Ágúst 2005

SPURT UM KJÖR ALDRAÐRA

Munið þið reyna að komast í ríkisstjórn í næstu kosningum, og hvað ætlið þið að gera í málum aldraðra...?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir

12. Ágúst 2005

ÚTBOÐ Á KOSTNAÐ STARFSFÓLKS

Ég vil bara benda á þegar sveitarfélög eru að selja eða bjóða út vélamiðstöð, sorphreinsun og fl., þá er oftar en ekki verið að henda út af vinnumarkaði fólki með takmarkaða starfsorku. Fólk sem getur unnið hálfan daginn, eða jafnvel í 8 tíma við ákveðin störf. Þetta fólk dettur út vegna þess að eigendurnir vilja fátt starfsfólk hraust með mikil afköst. Þetta á líka við um þvottahús spítalanna en þar...
Sigurður H. Einarsson

12. Ágúst 2005

AÐKOMA BORGARBÚA AÐ PÓLITÍSKRI STEFNUMÓTUN EÐA VALI Á "LEIÐTOGA"?

Ég skal játa að heldur kom mér á óvart að menn skyldu ekki sýna meiri lipurð í samningaviðræðum um framhald á R-listasamstarfinu en raun ber vitni og beini ég sjónum mínum þar einkum að Samfylkingunni. Ég geri mér grein fyrir að sitt sýnist hverjum í þessu efni og beinir Samfylkingarfólk spjótum að okkur í VG með ásökunum. Þannig er haft eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar á vefsíðu Morgunblaðsins í dag...
Þeir stjórnmálamenn sem raunverulega vilja áframhaldandi samstarf ættu að hafa morgundaginn í huga þegar þeir nú gefa samstarfsaðilum sínum einkunnir. Væntanlega vilja þeir samstarf málefnanna vegna....
Á hverju strandar þá? Í fyrsta lagi hefur Samfylkingin efasemdir um jafnræðisregluna. Hún telur Samfylkinguna vera stærri en hina flokkana og eigi hennar hlutur að vera meiri fyrir vikið. Tilbrigði við þessa hugsun er aukin aðkoma "óháðra". Þar mun vera vísað í Dag Eggertsson borgarfulltrúa auk þess sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var "óháð" á sínum tíma. Og þannig er það: Allt á sinn tíma. Einu sinni var ég "óháður" í framboði ...

11. Ágúst 2005

HERNAÐARÁRÓÐUR FRAMLEIDDUR Í KRÝSUVÍK

...Hver leyfir þetta eiginlega, eru það núverandi stjórnvöld, ofan á allt?  Vonandi fara íslenskir kjósendur að átta sig á hvers konar endemis liðleskjur stýra landinu. Ég held að þjóðráð væri að íslensku dátarnir sem voru sendir í óleyfi til Afganistan, væru frekar sendir suður í Krýsuvík til að vernda land og þjóð fyrir þessum ágangi. Það er gott og blessað að hingað komi erlendir kvikmyndatökumenn en ég er sammála þér og séra Gunnþóri Ingasyni í Mogga-greininni sem þú vekur athygli á hér á síðunni, að þetta flokkast frekar undir hernaðaráróður en kvikmyndalist. Sigurður Á. Friðþjófsson skrifar skemmtilega grein í Frjálsa penna hér á síðunni en ekki get ég...
Hafsteinn

9. Ágúst 2005

Sigurður Á. Friðþjófsson skrifar:SÉRA GUNNÞÓR, ÖGMUNDUR, CLINT, ÉG OG LANGALANGAFI

Langalangafi minn í föðurætt var Beinteinn Stefánsson. Fæddur í Hjallasókn í Ölfusi, Árnessýslu 23. október 1816. Látinn á Hellu á Vatnsleysuströnd 16. mars 1894. Hann var bóndi og smiður á Arnarfelli í Krýsuvík. Ólafur Þorvaldsson segir í bókinni Harðsporar að Beinteinn hafi byggt „Krýsuvíkurkirkju, hús það, sem enn stendur.“ Hann fluttist úr sókninni með fjölskyldu sína eftir áleitni frá afturgöngu á Selatöngum.

8. Ágúst 2005

SÉRA GUNNÞÓR OG CLINT

Seinni partinn í júlí birtist umhugsunarverð grein í Morgunblaðinu eftir séra Gunnþór Ingason, sóknarprest í Hafnarfirði en hann er jafnframt umsjónarmaður Krýsuvíkurkirkju fyrir hönd Þjóðminjasafns Íslands. Í greininni mótmælir séra Gunnþór fyrirhugaðri stríðsmyndatöku í Krýsuvík með Clint Eastwood í aðalhlutverki. Séra Gunnþór beinir athygli okkar að eftirfarandi...

7. Ágúst 2005

SPRENGJA INN Á MORGUNVERÐARBORÐIÐ EÐA ÞAKKARGJÖRÐ HÁTEKJUMANNS?

...Það er góðra gjalda vert að stofna til umræðu. Þá verður hins vegar að gera þá kröfu að menn fari með rétt mál og sýni umæðunni þannig einhverja lágmarksvirðingu. Vel má vera að Gunnar Smári sé heiðarlega að lýsa skoðunum sem búa með honum. Kannski er það ekkert undarlegt að maður með tvær milljónir á mánuði í kaup vilji til nokkurs vinna að viðhalda heimi sem færir honum slíkar tekjur og að lífssýn hans mótist af því. Fólk sem er á lágum tekjum hefur hins vegar flest allt aðra sýn á tilveruna. Fæstir trúa því að öll fengjum við blóm í haga  með því að ganga á enda brautina þar sem Gunnar Smári og félagar vilja vísa okkur. Það hefur nefnilega verið...

6. Ágúst 2005

HIROSHIMA OG HRYÐJUVERKARÍKI

...Talsmenn bandaríska sendiráðsins við Laufásveg myndu staðhæfa við ykkur lesendur góðir eins og þeir hafa gert í mín eyru að fjöldamorðin hafi verið til góðs, tilgangurinn hafi helgað meðalið. Þetta er mottó hryðjuverkamanna og einnig hryðjuverkaríkja. Þau eru tilbúin að myrða og tortíma ef það þjónar hagsmunum þeirra. Bandaríkin eru hryðjuverkaríki. Bandaríkjastjórn byggir á hugmyndafræði ofbeldis og framfylgir þeirri stefnu. Bandaríkjastjórn segir ekki koma til greina að eyða sínum kjarnorkuvopnum. Bandaríkjastjórn vill hafa þau upp í erminni og geta notað þau til að hóta andstæðingum. Bandaríkjamenn standa hins vegar fast á þeirri kröfu að...

3. Ágúst 2005

AUGLÝSINGAR ERU EKKI VONDAR

Stundum tala menn eins og auglýsingar séu í eðli sínu slæmar. Það er fráleit alhæfing. Allt er undir því komið hvernig þær eru úr garði gerðar, hvort þær eru upplýsandi og gefa rétt skilaboð um vöru og þjónustu eða annað sem auglýst er, eða eru eintómt glamur og byggja jafnvel á ósannindum. Mér finnst það síður en svo vera keppikefli að losna við auglýsingar úr Ríkisútvarpinu eins og nýr útvarpsstjóri, Páll Magnússon, talar um og margir hafa tekið undir. Ég væri því hins vegar fylgjandi að setja...

2. Ágúst 2005

ÞEGAR SAMFÉLAGSLÍMIÐ GEFUR SIG

...Upp til hópa er þetta einstaklingar í banka- og fjármálaheimi, sem eru búnir að hreiðra bærilega um sig í pottþéttu samtryggingakerfi þar sem stjórn og stjórnendur hvíla í stöðugu faðmlagi – allir bærilega haldnir í kjörum. Þetta eru ekki bankamenn heldur bankaræningjar  varð einum viðmælanda mínum að orði í dag. Ummæli dagsins átti þó ritstjóri Frjálsrar Verslunar. Hann kvað vera augljóst að samkvæmt þessum tölum væri framleiðnin mest í bönkum, þess  vegna væru launin þar svona há! Það er nefnilega það. Það er þá væntanlega ... Það sem ég vildi segja almennt um þessa þróun er að hún er stórvarasöm. Thatcher sagði, virkjum græðgina. Davíð Oddsson sagði virkjum eignagleðina og orðaði þannig hugsun Thatchers á geðfelldari hátt. En þetta er þó sama hugsun. Og nú hefur heldur betur tekist að virkja græðgina. En það er ekki með öllu saklaust að...

30. Júlí 2005

MÚNKHÁSEN OG BAKKABRÆÐUR SAMEINAST

Merkilegt er að þegar ég áðan opnaði heimasíðu þína Ögmundur, þá höfðum við
hér í Snotru verið að ræða um það sama, nema við gleymdum Múnkhásen barón.
Vissulega er það gleðilegt að Bakkabræður og Múnkhásen hafi sameinast ríkisstjórn Íslands. En við hér í Snotru höfum meiri áhyggjur af því hvernig þeir félagar ætla greiða lánin, varla eiga mennirnir 67milljarða. En hvað um það, ég kallaði í frúna og sagði henni að nú hefðu Bakkabræður og Múnkhásen sameinast. Ekki stóð á svari hjá þeirri gömlu...
Runki frá Snotru

29. Júlí 2005

NÝSKIPAÐUR ÚTVARSPSSTJÓRI SETUR EKKI LANDSLÖG

Þá er Páll Magnússon orðinn útvarpsstjóri. Vonandi klárar hann sig í því starfi. Ekki þótti mér lofa sérlega góðu að hann fór að lofa umdeilt frumvarp menntamálaráðherra. Ég heyrði alla vega ekki betur, eða heyrði ég ekki rétt, að hann segði í einhverju viðtalinu að ný útvarpslög yrðu samþykkt fyrir áramót? Þarf ekki samþykki Alþingis til þess? Varla var Páll skipaður til að taka yfir...
Orri

29. Júlí 2005

ÍSLENSK MÚNKHÁSENSTJÓRNMÁL

Öll rámar okkur eitthvað í hann Múnkhásen og sögurnar sem af honum voru sagðar, til dæmis þegar hann kvaðst hafa dregið sjálfan sig upp úr síki á hárinu. Gott ef asninn hans fylgdi ekki með knapa sínum við þessa dæmalausu björgun. Enginn stóð Múnkhásen framar í sjálfsblekkingu – nema ef vera skyldi að nú í byrjun 21. aldarinnar hafi Múnkhásen hinn þýski eignast verðugan keppinaut hér uppi á Íslandi. Að sjálfsögðu er það ríkisstjórnin okkar sem ég hef hér í huga; að hún keppi nú við Múnkhásen um hvor hafi gengið lengra í sjálfsblekkingu, hún eða Múnkhásen. Tilraunir íslensku ríkisstjórnarinnar við Múnkhásenmetið er margþættar og tengjast sölu Símans. Í fyrsta lagi að reyna að fá þjóðina til að trúa því að...

27. Júlí 2005

ÞEGAR SAMVISKAN TALAR

Þessa dagana ólgar blóð í æðum við Kárahnjúka. Andstæðingar náttúruspjallanna þar andæfa  og lögreglan grípur inn, stöðvar mótmælin og hneppir einhverja mótmælendanna í varðhald. Af þessu tilefni varð mér hugsað til þeirrar atburðarásar sem leiddi þessi ósköp yfir okkur. Miklar tilfinningar hafa verið á báða bóga, annars vegar í röðum virkjunarsinna og ekki síður hjá þeim sem telja umrótið við Kárahnjúka óafturkræf náttúruspjöll sem nánast varði við glæp.
Helgi Seljan Jóhannsson hefur tilheyrt báðum hópum. Á sínum tíma var hann hlynntur virkjun við Kárahnjúka. Síðan snerist honum hugur. Í báðum tilvikum talaði hann eins og samviskan bauð honum. Þetta er virðingarvert. Pistill Helga Seljan, sem hann flutti á Talstöðinni nýlega hefur farið afar víða, enda áhrifamikill. Helgi varð góðfúslega við ósk minni að birta pistilinn hér á síðunni...
Mótmælin við Kárahnjúka nú og nýleg "skyrmótmæli" í Reykjavík vekja margar spurningar. Hin mikla hneykslan sem grípur margan manninn vegna þessa andófs kalla til dæmis fram í huga mér ferð til Kárahnjúka talsvert áður en nokkur leyfi höfðu verið gefin til framkvæmda. Engu að síður voru stórvirkar vinnuvélar mættar á svæðið og...

27. Júlí 2005

Helgi Seljan skrifar: ÉG BIÐST FORLÁTS

Mig langar að segja ykkur ögn frá samviskubiti sem hefur nagað mig um nokkurra mánaða skeið. Þessum móral sem á sér ekki hliðstæðu í neinu öðru en þeirri líðan sem þeir einir þekkja sem drukkið hafa ótæpilega að kvöldi, misst minnið einhverra hluta vegna, og vaknað án þess að vita yfirleitt nokkuð um sigra eða ósigra kvöldsins áður. Þetta nefna margir í daglegu tali “þynnku”. Samt er þetta eitthvað svo miklu meira en höfuðverkur og ógleði, þessu fylgir skömm. Og eins og með svona óútskýrða skömm sem annað hvort dalar eða eykst þegar minnið kemur aftur, þá jókst þessi nú á dögunum. Byrjum á byrjuninni...

26. Júlí 2005

GOTT FRAMTAK GEGN ÁFENGISAUGLÝSINGUM


Nú veit ég ekki hvort allir áfengissalar eru svo vesælir ad brjóta landslögin. Sennilega er svo komið að undantekningarnar eru þeir sem virða landslög. Þeir ættu að njóta viðskipta okkar, hinir ekki. Auglýsingin hér að ofan fer nú víða um netið og er til marks um viðleitni þeirra sem vilja ekki láta óprúttna menn grafa undan landslögum og viðleitni samfélagsins til ad draga úr áfengisneyslu. Ég hvet alla til ad gaumgæfa þennan boðskap og senda þetta sem víðast.

26. Júlí 2005

BÖRN LÁTIN AUGLÝSA ÁFENGI

Ég er hjartanlega sammála þessari auglýsingu, sem þú ert með á síðunni um að sniðganga áfengissala sem auglýsa áfengi þvert á landslög. Ábendingar Árna Guðmundssonar eru einnig hárréttar um að börn sem koma sér upp heimasíðum eru óafvitandi gerð að lögbrjótum. Þau fá ókeypis aðgang að vef vistunarkerfi gegn því að  "eigandinn" , fyrirtækið folk.is eða íslenska bloggsamfélagið fái að setja inn auglýsinga-banner  frá sér. Börn sem  ritstjórar á sínum heimasíðum eru því...
Anna

23. Júlí 2005

ÉG HELD... AÐ SKÁLDIÐ HAFI NOKKUÐ TIL SÍNS MÁLS

Kristján Hreinsson, skáld, hefur birt greinar hér á síðunni í dálkinum Frjálsir pennar að undanförnu undir fyrirsögninni, Ég held... Síðast fjallaði hann um komandi borgarstjórnarkosningar og vildi að kannað yrði hvort þeir flokkar, sem nú mynda R-listann gætu ekki myndað kosningabandalag þannig að atkvæðin nýttust þeim öllum sameiginlega en færu ekki ...
Jóel

22. Júlí 2005

EKKI GEFA VÉLAMIÐSTÖÐINA

Þakka þér fyrir að vekja athygli á Vélamiðstöðinni hér um daginn. Nú þegar tilboð hafa verið opnuð vil ég minna á orð þín: “Reykjavíkurborg er ekki skuldbundin að taka neinu tilboði sem berst. Við væntum þess að borgin muni hafa langtímahagsmuni borgarbúa í huga og jafnframt þær sérstöku aðstæður sem skapast hafa í fjármálalífinu.” Með þetta í huga er tilboð upp á 735 milljónir lítilsvirðing við Reykvíkinga og starfsmenn hennar, enda ekki fyrir húsnæðinu hvað þá meira.
Sjálfur vil ég bæta við eftirfarandi...
Fimmtugur Borgarstarfsmaður.

22. Júlí 2005

VARNAÐARORÐ FRÁ STARFSMANNI REYKJAVÍKURBORGAR

Fyrir fáeinum dögum skrifaði ég grein hér á síðuna um fyrirhugaða sölu á Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar og hafði þar uppi efasemdir og varnaðarorð. Í tvígang hafa lesendur, svipaðs sinnis og ég, skrifað mér um þetta efni og nokkrir hafa haft samband. Nú síðast skrifar mér "fimmtugur borgarstarfsmaður". Telur hann það vera hið mesta glapræði að selja miðstöðina og færir greinargóð rök fyrir sínu máli. Augljóst er að hann ...
Vélamiðstöðin hefur aldrei verið baggi á Reykjavíkurborg og af henni hefur alla tíð verið hagnaður sem runnið hefur í borgarsjóð. Þá veit ég að enda þótt Reykjavíkurborg hafi nú látið "eignina" í söluútboð er ekki þar með sagt að Reykjavíkurborg þurfi að taka hvaða tilboði sem er. Enn er á það að líta, að hér hafa nú skapast aðstæður á fjármálamarkaði þar sem samþjöppun hefur keyrt úr hófi fram, tíu til fimmtán einstaklingar eru að sölsa undir sig nánast allar verðmætar eignir þjóðarinnar. Allt þetta gefur tilefni til að Reykjavíkurborg endurskoði áform um sölu Vélamiðstöðvarinnar....

21. Júlí 2005

Krsistján Hreinsson skrifar: ÉG HELD...

Ég held að það sé til lausn á vanda R-listans, hún er svo einföld að menn hafa ekkert komið auga á hana. Hún felst í því ...að spyrða sig í fylkingu fyrir kosningar með því að nota sama auðkenni að hluta. En þegar auðkenni er hið sama að hluta, þá nýtast þeim sem í slíku bandalagi eru öll atkvæði sem ella myndu ekkert vægi hafa. Framkvæmdin yrði þá t.d. þannig: flokkarnir þrír sem boðið hafa fram sem R-listinn, nota allir bókstafinn R sem aðalauðkenni, en síðan hefur hver flokkur sitt sérkenni þannig að ...

Sundrun hefur hlálegt afl
sem heftað getur framann
en vilji menn í valdatafl
þeir veð’ að standa saman.
...

21. Júlí 2005

HVAÐ MEÐ GUNNAR KRISTJÁNSSON?

Ég var að lesa pistil þinn um næsta útvarpsstjóra og er þér að mörgu leyti sammála, nema hvað ég teldi heppilegra að útvarpsstjóri kæmi ekki úr heimi stjórnmálanna. Ég leyfi mér að stinga upp á Gunnari Kristjánssyni presti á Reynivöllum. Þar fer maður sem væri vel til þess fallinn að gegna þessu mikilvæga hlutverki. Síðan er ég alveg sammála þér að fráleitt væri að skipa í þetta embætti einstakling sem er andsnúinn því að Ríkisútvarpið sé í almannaeign og undir almannastjórn. Því miður hefur...
Hafsteinn

21. Júlí 2005

ÖSSUR Í STUÐI – EN ÓNÁKVÆMUR

Nokkuð höfum við verið á öndverðum meiði á undanförnum dögum ég og minn góði vinur og baráttufélagi til margra ára, Össur Skarphéðinsson. Össur tekur stórt upp í sig (aldrei þessu vant) og telur svo komið að ég ógni skoðanafrelsi á Íslandi; segir þar helst saman að jafna tilburðum mínum og miðstjórn sovéska kommúnistaflokksins hér fyrr á tíð! Nokkuð þykir mér Össur vera ónákvæmur í vinnubröðgum að þessu sinni og niðurstöður sem hann kemst að  gjalda þess óhjákvæmilega... Hinn afkastamikli pistlahöfundur ÖS skrifar mikinn pistil um þær hugmyndir sem ég hef viðrað hér á síðunni um embætti útvarpsstjóra og hver væri best fallinn til að gegna því embætti. Össur leggst í miklar djúpsálarfræðilegar stellingar og kemst að þeirri niðurstöðu að ég vilji helst fá sjálfstæðismann til starfans. Sannast sagna...

20. Júlí 2005

HVERN EÐA HVERJA ÉG VIL FÁ SEM ÚTVARPSSTJÓRA

Ég gæti þess vegna svarað spurningunni strax og nefnt einstaklinga á borð við Þorstein frá Hamri eða Jóhönnu Kristjónsdóttur, góða talsmenn íslenskrar menningar, frjálsrar hugsunar; einstaklinga sem ég er sannfærður um að yrðu verðugir málsvarar Ríkisútvarpsins. Þetta yrðu útvarpsstjórar í hefð Andrésar Björnssonar. En ekkert er einhlítt í þessu efni. Þannig var Andrés Björnsson í hugum flestra fyrst og fremst ...Fyrir mitt leyti yrði ég ekki sjálfkrafa andvígur einstaklingi sem kæmi úr heimi stjórnmálanna, jafnvel þótt sá einstaklingur væri á öndverðum meiði við mínar stjórnmálaskoðanir – að öðru leyti en því að vilja Ríkisútvarpið í almannaeign og undir almannastjórn. Þetta er að sjálfssögðu lykilatriði....Útvarpsstjóri á að vera einstaklingur sem hefur sýnt djörfung og hug þar sem hann hefur látið að sér kveða. Við höfum engan áhuga á hlýðnum já-karli eða já-konu. Innan allra stjórnmálaflokka er að finna kröftuga einstaklinga: Fólk sem hefur sýnt og sannað að það stendur á sínu og lætur eigin stundarhag ekki villa sér sýn. Sem betur fer erum við minnt á það annað veifið að slíkt fólk er til...

17. Júlí 2005

R-LISTINN ER ANNAÐ OG MEIRA EN MERKIMIÐI

...R-listinn hefur gert margt gott í tímans rás, í sumu hefur honum mistekist. Eitt eru menn þó orðnir mjög meðvitaðir um í þeim röðum þar sem ég þekki til og það er mikilvægi þess að skilgreina lýðræði á víðari hátt en gert hefur verið. Í stað þess að leggja allt upp úr kosningu fulltrúa í borgarstjórn – að hún sé sem opnust og að menn séu lausir allra mála að þeim loknum – þá beri að líta á lýðræði sem stöðugt verkefni. Reyndar hef ég grun um að þeir sem leggi mest upp úr prófkjaralýðræði, að ekki sé minnst á leiðtogalýðræðið, séu einmitt þeir sem minnst gefi fyrir þessa breiðu lýðræðislegu aðkomu. Þeir vilja láta kjósa leiðtoga og fulltrúa sem síðan hafi umboð til að stjórna. Mitt er valdið og engar refjar. Kjóstu mig og síðan hlýðir þú! ...
Er þá komið að tilefni þessara skrifa. Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við Össur Skarphéðinsson alþingismann Samfylkingarinnar sem nú fer mikinn í fjölmiðlum. Hann vill að Samfylkingin bjóði fram undir heiti R-listans hvort sem aðrir flokkar verði með eður ei! Óháðir mega vera með segir Össur. Vissulega er það sjónarmið að Samfylkingin bjóði fram ein og sér, en þá á hún að gera það undir réttum formerkjum. Annað eru falsaðar vörumerkingar og viðfangsefni fyrir "Jóhannes neytanda" að skoða. Það sem verra er að...

17. Júlí 2005

Kristján Hreinsson skrifar: ÉG HELD...

...Slys á þjóðvegaum úti eru þess eðlis að þar fara ungir ökuleyfishafar fremstir í flokki þegar skoðað er hverjir eiga beina aðild að flestum slysum. Ég held að alvaran sé mikil í málinu, raunar meiri en svo að eitthvert umferðarátak geti skilað okkur ávinningi til frambúðar. Ef þessum sökum og að gefnu tilefni geri ég það að tillögu minni að þingmenn úr öllum flokkum komi sér saman um að breyta lögum, þannig að ungt fólk þurfi að hafa náð 19 ára aldri áðuren það fær að taka bílpróf. Síðan tel ég sýnt að takmarka verði vélarstærð og hestaflafjölda í bifreiðum sem ungir ökumenn hafa leyfi til að aka. Ef þingmenn allra flokka standa saman um þetta átak, þá held ég að þeir geti allir komist hjá því skelfilega atkvæðatapi sem óhjákvæmilega yrði raunin ef ...

16. Júlí 2005

ASÍ Á HÁLUM ÍS

Félagar mínir í ASÍ hafa gert sig seka um sömu afglöp og iðulega henda hagvísindaspekinga svokallaða: Þeir tala í hagfræðilegum alhæfingum þegar þeir hvetja til "aðhalds í ríkisfjármálum". Í yfirlýsingu ASÍ frá 6. þessa mánaðar, segir m.a.: " ASÍ, OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Seðlabanki Íslands, SA og aðrir aðilar sem láta sig efnahagsmál varða hafa ítrekað bent á nauðsyn þess að stórauka aðhald í ríkisfjármálum. Skattalækkanir ríkisstjórnarinnar kalla að auki á viðbótarniðurskurð eigi þær ekki að valda aukinni þenslu." Hér stillir Alþýðusambandið sér upp með aðilum sem leynt og ljóst róa að því að þrengja að opinberri þjónustu og þröngva henni með sveltistefnu út á markaðstorgið. Þegar þangað er komið hefur hins vegar enginn fyrrgreindra aðila lengur áhyggjur af þensluvaldandi eyðslu. Ekki man ég eftir því að heyra Alþjóðagjaldeyrissjóðinn gagnrýna ...

16. Júlí 2005

HVERSU LENGI Á BANDARÍKJASTJÓRN AÐ KOMAST UPP MEÐ AÐ FREMJA MANNRÉTTINDABROT?

Á vef CNN fréttastofunnar bandarísku segir nýlega frá dæmum af pyntingum, líkamlegum og ekki síður andlegum, í Guantanamo fangelsi Bandaríkjamanna á Kúbu. Yfirpyntingameistarinn um nokkurra missera skeið frá 2002, Miller að nafni, hefur  til dæmis skýrt frá því að til að fá tiltekinn fanga í fangabúðunum til að tala hefði verið reynt að brjóta hann niður, og svo vitnað sé í CNN, með því hefja yfirheyrslurnar á staðhæfingum um að ...Mannréttindasamtök víðs vegar um heiminn hafa mótmælt mannréttindabrotum Bandaríkjastjórnar og hefur Amnesty International staðið þar í fararbroddi. Í lok júnímánaðar mótmælti Íslandsdeild Amnesty International pyntingunum í Guantanamo við Austurvöll í Reykjavík. Fólki gafst kostur á að reyna í faeinar mínútur það sem er daglegt brauð fanganna í Guantanamo...Í Guantanamo eru nú 520 fangar. Í pyntingabúðunum er þeim haldið  án dóms og laga. Sárafáir hafa verið ákærðir fyrir að hafa drýgt einhvern glæp. Það skyldu þó aldrei vera glæpamennirnir sem hafa lyklavöldin í Guantanamó fangelsinu...

16. Júlí 2005

FRAMSÓKNARFLOKKURINN í BLÚSSANDI SÓKN

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Ker hf og Vátryggingafélag Íslands gerðu fyrir Framsóknarflokkinn í gærkvöldi er flokkurinn með um 90% fylgi en aðrir flokkar talsvert minna. Spurt var: Hvaða stjórnmálaflokk myndir þú styðja ef kosið yrði til Alþingis á morgun. 89% kváðust mundu kjósa Framsóknarflokkinn.
Úrtakið var svokallað random úrtak úr félagaskrám flokksins og náði til 200 félaga. Svörun var með miklum ágætum...
Ebbi

15. Júlí 2005

LEIÐTOGAPRÓFKJÖR TIL AÐ FESTA LEIÐTOGA Í SESSI

Mikið er ég sammála gagnrýni þinni á hugmyndir sem fram hafa komið á hugsanlegt leðitogaprófkjör í R-listanum, í svari þínu til Hafsteins í lesendadálkinum í fyrradag. Þú segir réttilega að þetta hljómi sem "kall aftan úr fornöld", og ég held líka að sé rétt að þetta komi fyrst og fremst "úr hálsi þeirra sem vilja foringjaræði." Þeir sem mest leggja upp úr...
Sunna Sara

15. Júlí 2005

HVAÐ SKYLDI KFON FÁ FYRIR SÖLU SÍMANS?

Komið hefur í ljós á undanförnum vikum að Kaupfélag Framsóknar og nágrennis (KFON) hefur hagnast verulega á sölu ríkiseigna á liðnum árum. Þannig græddi  kaupfélagsstjórinn sjálfur, Halldór Ásgrímsson, og pólitískir venslamenn hans í það minnsta hundruði milljóna króna á sölu Búnaðarbanka Íslands. Sumir, eins og til að mynda ríkisendurskoðandi, virðast svo gjörsamlega veruleikafirrtir, eða þá vel efnum búnir, að þeir kalla hundruði milljóna og jafnvel milljarða óverulegar upphæðir og þar af leiðandi...
Þjóðólfur

15. Júlí 2005

HVERNIG SVARAR AKUREYRARBÆR ÁRNA?

Árni Guðmundsson, æskulýðsfulltrúi íHafnarfirði, formaður starfsmannafélagsins þar og stjórnarmaður í BSRB, skrifar athyglisverðan pistil fyrir fáeinum dögum um "forvarnarstefnu" Akureyrarbæjar. Hann gerir að umræðuefni samning bæjarins við Ölgerðina Egil Skallagrímsson um framlög til forvarna í bæjarfélaginu, 10 krónur af söluandvirði hverrar gosflösku skal nú renna til forvarna.
Sá hængur er á segir Árni, "að á sama tíma ...

14. Júlí 2005

LANDAMÆRAGÆSLAN AUKIN

...Við hjónin í Snotru hugðust skoða framkvæmdirnar við Kárahnjúka nú í sumar, sem okkur hugnast ekki. Nú hefur Ríkislögreglustjóri gefið út yfirlýsingu samkvæmt  Ríkisútvarpinu svo hljóðandi:
“RíkislögreglustjórI hefur farið fram á aukna landamæragæslu af ótta við að mótmælendur komi hingað til lands frá Skotlandi þar sem ...
Runki frá Snotru og frú.

14. Júlí 2005

VÆRI EKKI RÁÐ AÐ ENDURSKOÐA ÁFORM UM SÖLU SÍMANS?

Það er svolítið sérstakt að koma inn á skrifstofur embættis Sáttasemjara ríkisins þessa dagana. Ein skrifstofuálman hefur frá því í vor verið lögð undir sýslunarmenn einkavæðingar Símans. Securitas-verðir gæta þess að óviðkomandi aðilar kássist ekki upp á þessa sölumenn þjóðareignarinnar...Síminn er eins auðveld bráð og hugsast getur fyrir fjármálabraskara. Þetta er stofnun sem ætlunin er að selja skuldlausa; stofnun sem gefur eigendum sínum margra  milljarða arð á ári hverju. Kaupandinn mun að öllum líkindum geta tekið lán út á þennan gullkálf og látið hann síðan borga sig upp á tiltölulega skömmum tíma. Þetta er þekkt aðferð.
En hvað er ríkisstjórnin að hugsa? Hún vílar ekki fyrir sér að...

13. Júlí 2005

UM R-LISTA, PRÓFKJÖR OG LEIÐTOGA

Sæll Ögmundur. Þú hefur verið þögull sem gröfin um komandi borgarstjórnarkosningar. Öðru vísi mér áður brá...Ég var á sínum tíma félagi í Alþýðubandalaginu og minnist ég þess að í aðdraganda stofnunar Samfylkingarinnar skrifaðir þú eitt sinn dreifibréf þar sem þú sagðist ekki fylgjandi því að fólk með mjög mismunandi viðhorf gengi í eina pólitíska sæng. Þér fyndist hins vegar sjálfsagt að flokkar gerðu með sér samkomulag um samstarf eftir kosningar. Á þessari forsendu gagnrýndir þú bæði hugmyndirnar að baki R-listanum og síðar Samfylkingunni. Hefurðu skipt um skoðun? Og hvað með opið prófkjör? Á kannski að kjósa borgarstjórann beint – hafa "leiðtogaprófkjör" eins og heyrst hefur innan úr Samfylkingunni...?
Hafsteinn

12. Júlí 2005

VILJUM VIÐ LÁTA RUKKA OKKUR FYRIR AÐ KEYRA KJÖL?

...All sérkennileg umræða hefur átt sér stað í fjölmiðlum undanfarna daga. Í dagblöðum og fréttatímum lýsa sjálfskipaðir vegagerðarmenn því yfir að þeir hyggist byggja veg hér og veg þar, í gær átti það að vera vegur  yfir Stórasand –  í dag er það vegur yfir Kjöl. Allt sé þetta að verða klappað og klárt. Þeir séu eiginlega búnir að ákveða þetta nokkrir félagar. Verið sé að safna hlutafé í Kjalarveginn. Fréttamenn orða ekki spurningar sínar lengur í viðtengingarhætti. Þeir telja sig vera að ræða við fulltrúa valdsins og spyrja beint út hvenær vegirnir verði opnaðir. Þeim er reyndar vorkunn því samgönguráðherrann hefur...

6. Júlí 2005

ÞRÓUNARSTOFNUN ÍSLANDS OG MÓTMÆLIN GEGN MISRÉTTI Í HEIMINUM

Það er mikil gæfa að Sighvatur Björgvinsson skuli ekki vera varðstjóri í lögreglunni í Edinborg. Hún glímir nú við tugþúsundir fólks sem þar er saman komið til að vekja athygli á fátækt og misrétti í heiminum í tilefni fundar forsvarsmanna voldugustu hervelda heimsins. Í útvarpsviðtali gaf Sighvatur - sem nú gegnir stöðu framkvæmdastjóra Þróunarstofnunar Íslands – lítið fyrir þessi mótmæli. Hann ætti ekki von á því að slíkt skilaði "miklu fyrir fátækt fólk í Afríku, enda held ég að þessir ribbaldar með sýniþörf séu nú að hugsa um annað en fátæka fólkið í Afríku. Hins vegar er það fundur ráðamanna ríkjanna G-8, sem ég vona nú að geti haldið sinn fund þrátt fyrir að ribbaldar með sýniþörf  vilji spilla fundinum."  Fréttamaður benti nú á að kannski væru nú ekki allir mótmælendur þarna ribbaldar með sýniþörf.
Sighvatur kvaðst...

5. Júlí 2005

HVERS VEGNA VG FAGNAR SÉRSTAKLEGA FRUMKVÆÐI SÚÐVÍKINGA


Bæjaryfirvöld í Súðavík hafa tekið af skarið og ákveðið að leikskólinn þar í bæ skuli verða gjaldfrjáls. Um þetta hefur verið fjallað í fjölmiðlum sem eðlilegt er og þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hefur sent Súðvíkingum hamingjuóskir af þessu tilefni. Hvers vegna skyldi þingflokkurinn gera það? Ástæðan er tvíþætt. Í fyrsta lagi sýna Súðvíkingar frumkvæði og stíga mikilvægt framfaraspor sem ástæða er til að félagslega þenkjandi fólk gleðjist yfir. Í öðru lagi er þetta mál VG sérlega hugleikið því ...

4. Júlí 2005

BREYTT VIÐHORF TIL LANDMÆLINGA?

Þetta er titillinn (að undanskildu spurningamerkinu) á grein Sigríðar Önnu Þórðardóttur, umhverfisráðherra, í júníútgáfu Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands. Sigríður Anna segir Landmælingar vinna þarft verk. Vandinn sé hins vegar sá að síðustu misseri hafi "komið til árekstra milli Landmælinga Íslands og einkafyrirtækja sem bjóða landupplýsingar". Sigríður Anna segir að opinberir aðilar eigi að tryggja ...En hér er rétt að spyrja hvort þetta sé endilega gott fyrir skattgreiðendur og neytendur. Ég held ekki. Með þessari stefnu eru vaxtarsprotar ríkisfyrirtækjanna einfaldlega skornir af og þeim gert ókleift að þróast á "dínamískan hátt": Framfaraandinn er drepinn niður. Þjónkun við...

3. Júlí 2005

VARASAMT AÐ SELJA VÉLAMIÐSTÖÐ

Vélamiðstöð Reykjavíkur var sett á laggirnar árið 1964. Fyrir réttum þremur árum, í júlíbyrjun 2002 var stofnunin gerð að hlutafélagi í eigu Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar. Síðastliðið haust var ákveðið að selja hlutafélagið og er nú svo komið að það hefur verið auglýst til sölu. Ekki tel ég þetta vera skynsamlegt, sérstaklega við þær aðstæður sem nú eru uppi. Ástæðan er sú að jafnvel þótt einhver samkeppni kunni að verða fyrst í stað (sem þó er ólíklegt) með leigu á tækjum til sorphirðu og annarra verkefna sem Vélamiðstöðin sinnir fyrir borgarbúa, þá er sú hætta mjög raunverulega fyrir hendi að...Reykjavíkurborg er ekki skuldbundin að taka neinu tilboði sem berst. Við væntum þess að borgin muni hafa langtímahagsmuni borgarbúa í huga og jafnframt þær sérstöku aðstæður sem skapast hafa í fjármálalífinu.

2. Júlí 2005

BRÚUM BILIÐ

Birtist í Morgunblaðinu 01.07.05
...Við megum ekki gleyma því að hið sama gildir um fátækar þjóðir heimsins. Þeim er jafnvel enn meiri lífsnauðsyn en okkur að efla þjónustu af þessu tagi innan sinna samfélaga. Þess vegna þarf að hjálpa þeim að losna úr viðjum auðhyggjunnar sem fyrrnefndar alþjóðlegar stofnanir hafa hneppt þær í. Brosandi segjast hinar ríku þjóðir nú koma færandi hendi, veita líkn og náð og fella niður skuldir. Um forsendur og skilyrði slíkra tilboða er minna rætt.  Mikilvægt er að fjölmiðlar haldi stjórnvöldum, og reyndar okkur öllum, við efnið hvað þetta varðar. Íslendingar eiga aðild að stjórnum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og eigum við þar samstarf við aðrar Norðurlandaþjóðir. Nokkrum sinnum hef ég vakið athygli á málflutningi Norðurlandanna á þessum vettvangi og gagnrýnt það hve hallur hann hefur oft verið undir markaðsöflin. Og ekki má gleyma ...

1. Júlí 2005

UTANRÍKISRÁÐHERRA FÆRT HVÍTA BANDIÐ

Alvarlegasta ógn sem steðjar að mannkyninu er án efa misskiptingin í heiminum og sú örbirgð sem hrjáir drjúgan hluta mannkynsins. Á hverjum degi deyja 30 þúsund börn af völdum fátæktar. Í dag, 1. júlí, er fyrsti baráttudagurinn af nokkrum sem kenndur er við „hvíta bandið“, tákn um þá herör sem skorin verður upp um allan heim af verkalýðssamtökum, félagasamtökum og almenningi gegn þessu misrétti. BSRB tekur þátt í þessu átaki bæði beint og með aðild sinni að alþjóðasamtökum launafólks sem beita sér af alefli í þessari baráttu. Davíð Oddssyni, utanríkisráðherra, var í dag afhent ályktun stjónar BSRB þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar í þeirri viðleitni að brúa bilið á milli ríkra og snauðra í heiminum.  Í samþykkt BSRB segir...

1. Júlí 2005

BRAGÐ ER AÐ ÞÁ BARNIÐ FINNUR

...Og talið barst að annarri grúbbu. “Veist þú nokkuð hver á BT, Sena og Office one? Það er Dagur Group en ekki Baugur en ég held hins vegar að Baugur Group eigi Dag. Er það ekki pabbi?” Ég sagðist ekki vita það en spurði strákinn á móti hvort hann hefði ekki sagt fiskinum frá ástandinu í Framsóknarflokknum. Og ekki stóð á svari hjá stráknum: “Ég þarf þess ekki. Hann veit allt um spillinguna þar. Hann horfði á Valgerði ráðherra í Kastljósinu í gærkvöldi....
Þorleifur

30. Júní 2005

VIÐSKIPTABLAÐIÐ MEÐ VATN Í MUNNI


Á Viðskiptablaðinu er mönnum mjög niðri fyrir. Þar á bæ vilja menn einkavæða flugvelli landsins. Þetta hafi verið gert í Ungverjalandi, Indlandi, Hong Kong og Mexíkó. Er ekki komið að Reykjavíkurflugvelli, spyr Viðskiptablaðið með vatnið í munninum fyrir hönd væntanlegra fjárfesta. Nei, segir Sturla samgönguráðherra, engin áform séu um einkavæðingu flugvalla, “það hefur ekki verið neitt uppi á teningnum.”. En hvað skyldi Framsókn segja? Það stendur ekki á svari hjá þingflokksformanninum Hjálmari Árnasyni, hann telur vel koma til álita að fela einkaaðilum reksturinn á Reykjavíkurflugvelli: “Það er náttúrlega tækifæri sem væri sjálfsagt og eðlilegt að skoða. Varðandi aðra flugvelli ...

29. Júní 2005

UM "STJÓRNLÆGAR ÁKVARÐANIR"

Því miður hittist svo illa á að sölumaður knúði dyra hjá mér þegar Birgir Guðmundsson, fréttamaður, fjallaði um R-lista samstarfið í Reykjavík í Spegli Ríkisútvarpsins í kvöld. Ég náði því ekki að hlýða á boðskap Birgis og útleggingar. Þó náði ég að heyra all sérstaka kenningu hans um Vinstrihreyfinguna grænt framboð; henni "léti ekki að taka stjórnlægar ákvarðanir"! Þetta kurteislega orðlag held ég að eigi að skiljast sem svo að við í VG viljum ekki axla ábyrgð á því að stjórna. Ekki heyrði ég nokkurn rökstuðning fyrir þessari staðhæfingu. Ég veit ekki betur en...

29. Júní 2005

Rúnar Sveibjörnsson skrifar: UM VIÐEY, CIA OG VINSTRI GRÆNAN FINNA

...Ég hef lítið látið heyra í mér að undanförnu, enda gekkst ég undir aðgerð og er að jafna mig eftir hana. Nú þegar ég tek mér í hönd "hinn frjálsa penna" hér í dálkinum kemur mér fyrst í hug hvort ekki sé rétt að nota tækifærið og þakka Sighvati Björgvinssyni, krata og fyrrverandi heilbrigðisráðherra og þeim félögum í Viðeyjarstjórninni fyrir að auka kostnaðarvitund sjúklinga. Eins og menn muna felldi Sighvatur niður niðurgreiðslur af sýkla- og verkjalyfjum. Þær rúmu 50 þúsund krónur sem ég hef greitt í sýklalyf hafa vissulega kennt mér að ekki borgar sig að vera veikur. Alltaf þegar heilsunni hrakar – og á það ekki síst við í þessum hremmingum mínum að undanförnu – hefur mér orðið hugsað til Viðeyjarstjórnarinnar. Hún innrætti sjúkum nefnilega raunsæja vitund um hlutskipti sitt. Af þessari vitundarvakningu...

29. Júní 2005

ÁKALL UM UMBURÐARLYNDI GAGNVART REYKINGAMÖNNUM

Skemmtileg og fræðandi grein um Kristjaníu. Sammála þér í því að hægristjórnin sýnir þessu fólki ekki nægilegt umburðarlyndi. Það þarf jú enginn að búa þarna eða kaupa sér einhver vímuefni. Öllum sem mislíkar geta yfirgefið hverfið. Eigum við ekki líka að sýna þeim umburðarlyndi sem vilja koma saman einhversstaðar til að reykja sígarettur, t.d. á skemmtistöðum. Er ekki enn meiri ástæða til...
Oddgeir Einarsson

28. Júní 2005

RIGNINGIN, NÓBELSVERÐLAUNIN OG AFMÆLI BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS

Með hliðsjón af minnisleysi forsætisráðherra í tengslum við þátttöku hans í sölu og kaupum á Búnaðarbanka Íslands haustið 2002 tel ég mér skylt að benda á að 1. júlí næstkomandi verða 75 ár liðin frá stofnun bankans. 25 ára afmæli bankans, árið 1955, rifjaðist einmitt upp fyrir mér þegar forsætisráðherra horfði um öxl, heil 50 ár aftur í tímann, í þjóðhátíðarræðu sinni á 17. júní síðastliðinn. Við það tækifæri hentaði það honum að muna annars vegar eftir miklu rigningarsumri og svo hins vegar nóbelsverðlaununum sem Halldór Kiljan Laxness landaði á því ári. Þótt ótrúlegt sé var ég búinn að gleyma rigningarsumrinu mikla og vil því launa ráðherranum hæstvirtum greiðann með því að minna hann á þetta kærkomna bankaafmæli. Og af hverju ætti það ekki að henta hæstvirtum forsætisráðherra að...
Þjóðólfur

26. Júní 2005

EF RÍKISENDURSKOÐANDI VILL SÝNA GOTT FORDÆMI...

...Í blaðaviðtölum hefur ríkisendurskoðandi skýrt frá sparnaðaraðgerðum innan eigin stofnunar. Allra leiða hafi verið leitað til að draga úr tilkostnaði, jafnnvel hafi starfsmenn fallist á launalækkun. Við þurfum að sýna öðrum gott fordæmi, lýsir ríkisendurskoðandi opinberlega yfir, nokkuð ánægður með sig...Ég fæ ekki betur séð en Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi tali fyrir þessari aðferðafræði innan eigin stofnunar. Gagnvart öðrum predikar hann hins vegar valdboð og hefndaraðgerðir. Mín ráðlegging til ríkisendurkoðanda er þessi: Ef þú vilt verða öðrum gott fordæmi skaltu gefa ráðleggingar sem þú sjálfur værir reiðbúinn að fylgja. Og síðast en ekki síst, ef Ríkisendurskoðun ætlar ekki að láta einangra sig og líta á sig sem þjónustustofnun við pólitískt framkvæmdavald væri ráð að...

25. Júní 2005

FJALLAÐ UM VERKALÝÐSBARÁTTU OG MANNRÉTTINDI Á KIRKJUDÖGUM

...En aftur að því grundvallarviðhorfi að verkalýðsbaráttan snúist um að færa baráttu einstaklinga og hópa inn á sameiginlegan vettvang samstöðunnar, einkum þegar um er að ræða réttindi sem erfitt er fyrir einstaklinginn að standa vörð um. Í málstofunni var rætt um það hvar nú væri einkum þörf á samstöðu af þessu tagi. Mörg atriði bar á góma. Eftirtektarvert var hve menn voru slegnir yfir þeirri þróun sem nú á sér stað í íslenskri fjölmiðlun. Það færðist í vöxt að viðkvæm málefni einstaklinga væru tekin til óvæginnar umfjöllunar í fjölmiðlum og væru tilfinningar fólks iðulega fótum troðnar. Þetta væri ofbeldi og gagnvart því stæðu einstaklingarnir berskjaldaðir. Þeir hefðu hvorki þrek né getu til að svara fyrir sig enda auðvelt mál að valta yfir þá aftur í næsta blaði eða í næsta þætti. Þetta væri orðið samfélagsmein og þyrfti samfélagið í sameiningu að taka á því. Í þessu sem öðru væru...

22. Júní 2005

FULLTRÚI KRÖFTUGUSTU ALHEIMSSAMTAKA LAUNAFÓLKS Á ÍSLANDI


Á morgun fimmtudag heldur Hans Engelberts, framkvæmdastjóri PSI, Publuic Services International, Samtaka launafólks í almannaþjónustu, fyrirlestur um alþjóðavæðinguna í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89 í Reykjavík. Innan vébanda þessara samtaka eru yfir tuttugu milljónir manna og leyfi ég mér að fullyrða að þetta séu lang kröftugustu verkalýðssamtök starfandi á heimsvísu. Þau hafa beitt sér af miklum krafti fyrir...

21. Júní 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: DÓNAR VIÐ ÍSLENSKU KÚNA

Eins og allir vita er það ekki á færi nema hæfustu manna að vera boðlegir dónar. Til að ná árangri á því sviði er þar að auki öruggara að vera sæmilega efnaður og eiga vini á réttum stöðum. Sem dæmi um vellukkaðan dónaskap má taka skrif háskólaprófessors um Halldór Laxness, þar sem hann...Á dögunum komu nokkrir valinkunnir jakkafataklæddir menn hingað og þangað að úr heiminum í lýðræðislegan fund til að ræða lýðræðislega hugsjón sína um framleiðslu á áli. Þeir sátu prúðbúnir og framúrskarandi kurteisir á Nordica hóteli í Reykjavík, áttu sér einskis ills von, og hafa líklega verið að ræða umhverfisspjöll, ný atvinnutækifæri, lágt raforkuverð og hagvöxt, allt saman – að sönnu mishollir – ávextir af stóriðjustefnunni. Þá gerist það að þrír dónar koma inn í salinn og sletta grænu skyri á fundarmenn, að sögn einkum þá sem...

21. Júní 2005

HVER ER FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSLANDS?

...Á þessu stigi málsins verður auðvitað hver og einn að trúa því sem hann vill um meint meðvitundarleysi Halldórs um eigin bankakaup. Engan hef ég þó enn talað við sem leggur trúnað á slíkt. Og af hverju trúir fólk ekki þessu meinta meðvitundarleysi? Þar veldur eflaust mestu sú einfalda og augljósa ástæða að hjá flestum að minnsta kosti mundi það teljast til þó nokkurra tíðinda að eiga þátt í því að kaupa heilan banka - að ekki sé nú talað um þegar svo óvenjulega hefur viljað til, eins og í tilviki Halldórs, að viðkomandi var hvort tveggja í senn; partur af “seljendagenginu” og “kaupendagenginu”. En samkvæmt minnisblaði Ríkisendurskoðunar munu...
Þjóðólfur

21. Júní 2005

MYNDIRÐU STÖKKVA OFAN AF SÍVALATURNINUM?

Í kvöld sýndi RÚV danska heimildarmynd um Kristjaníu. Hún er í hjarta Kaupmannahafnar þar sem áður voru stöðvar danska hersins. Á hippatímanum, í lok 7. áratugar síðustu aldar, var myndað eins konar fríríki í Kristjáníu. Þar kom sér fyrir allstór hópur fólks, sem ekki sætti sig við reglustrikusamfélagið og má segja að óvíða hafi anarkískt skipulag náð að skjóta rótum eins rækilega og í Kristjaníu. Þessu fékk ég tækifæri til að kynnast ögn þegar ég gerði sjónvarpsþátt um Kistjaníu á árinu 1988 en þá var ég fréttamaður Sjónvarpsins á Norðurlöndum, staðsettur í Kaupmannahöfn. Hin anarkíska stjórnskipan í Kristjaníu  var mjög lýðræðisleg og byggði hún á allföstu formi. Þegar ég lagði leið mína um Kristjaníu síðastliðið sumar þóttist ég sjá merki ýmissa breytinga í átt til "borgaralegs samfélags" í hluta Kristjaníu, þótt annars staðar væri yfirbragðið svipað og áður fyrr. Í dönsku heimildarmyndinni voru ...

20. Júní 2005

UM BARTSÝNISMENN OG BÖLSÝNISMENN

Forsætisráðherra þjóðarinnar hélt venju samkvæmt ræðu á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Um sumt var ræðan ágæt, tilvitnanir í þjóðskáldin íslensku og spakmæli frá fyrri tíð. Framtíðarsýn forsætisráðherrans er hins vegar ekkert sérstaklega íslensk, miklu frekar bandarísk; forsætisráðherra sér það fyrir sér að fyrirtæki taki yfir verkefni í menningu, listum og samfélagsþjónustu sem fram til þessa hafa verið á vegum samfélagsins. Hálfnöturlegt er að heyra þennan boðskap frá Austurvelli á þjóðhátíðardaginn. Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra varð í ræðu sinni nokkuð tíðrætt um bjartsýnismennn og bölmóðsmenn. Ef menn horfðu...

15. Júní 2005

UM LISTABÓKSTAFINN V

Af hverju er U en ekki V á kosningaseðlinum ...?
Jóhann

15. Júní 2005

VALGERÐUR HITTIR VALGERÐI FYRIR – OG NOKKRA GAMLA FÉLAGA


Valgerður Sverrissdóttir bankamálaráðherra hefur vakið nokkra athygli að undanförnu með tilfinningaþrungnum yfirlýsingum um þá þróun sem nú á sér stað á íslenskum fjármálamarkaði. Hefur hún hnjóðað nokkuð í Björgólf Guðmundsson og aðra umsvifamikla fjármálamenn og þykir þeir vera heldur betur að færa sig upp á skaftið í samfélaginu...Þar horfa menn til manna á borð við Þórólf Gíslason á Sauðárkróki, eins helsta fjáröflunarmanns flokksins til áratuga, Finns Ingólfssonar, fyrrum varaformanns og Ólafs Ólafssonar eins helsta fjármálagúrús flokksins til langs tíma. Tveir hinir síðarnefndu birtust sællar minnigar skælbrosandi á baksíðu Morgunblaðsins þegar þeir höfðu handsalað kaupin á Búnaðarbankanum í árslok 2002, nokkuð sem er til umræðu þessa dagana. Þess má geta í...

14. Júní 2005

ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN, RÁÐGJÖFIN OG EIN LÍTIL SPURNING

...Í fréttum í dag kom fram að hér hefði verið á ferð fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, og viti menn, hann vildi samdrátt í ríkisútgjöldum, leggja Íbúðalánasjóð niður hið bráðasta og láta stíga á bremsurnar gagnvart launafólki. Reyndar brá hann út af venjunni að einu leyti. Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðisins vildi láta fresta skattalækkunaráformum ríkisstjórnarinnar. Ástæðan var að sjálfsögðu þensluvaldandi stóriðjuframkvæmdir á vegum ríkisstjórnarinnar. Þegar ég heyrði fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins dósera á þennan hátt í morgunfréttum vaknaði ein lítil en ágeng spurning í mínum huga...

13. Júní 2005

FJÖLMENNI HJÁ BSRB Í MUNAÐARNESI

Fullt var út úr dyrum á vel heppnaðri menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi um síðastliðna helgi. Opnuð var sýning á verkum Önnu Hrefnudóttur, myndlistarkonu. Þorteinn frá Hamri, skáld, las úr ljóðum sínum, bæði birtum og einnig úr óbirtum handritum. Þetta var stund með skáldinu sem margir munu án efa geyma í minningu sinni. Þá söng Skagfirska söngsveitin af miklum krafti og við mikinn fögnuð viðstaddra. Eftir vel heppnuð skemmtiatriðin var ...

12. Júní 2005

DANSI DANSI DÚKKAN MÍN

Björgólfur Guðmundsson svífur inn gólfið á gamla íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu í Reykjavík. Margir bestu listamenn þjóðarinnar – leikarar Þjóðleikhússins -  höfðu beðið komu hans af eftirvæntingu. Hljómsveit hóf að leika þegar formaður stjórnar Landsbankans og helsti eigandi bankans gekk í salinn. Hann var kostunarmaður nýs sviðs í leikfimihúsiunu. Allir voru þakklátir. Geysilega þakklátir. Þarna yrði hægt að sýna mikilvæg listaverk. Verk sem menn án efa telja að eigi eftir að lyfta andanum. Þjóleikhússtjóri – ég sá ekki betur í ítarlegri sjónvarpsfréttinni en það væri hún ...

10. Júní 2005

JÁ, HVAÐ YRÐI SAGT Í EINKAFYRIRTÆKI GUÐLAUGUR ÞÓR?

...Á ráðstöfun fjármuna í opinberum stofnunum annars vegar og gróðafyrirtækjum á markaði hins vegar, kann þó að vera einn grundvallarmunur. Hann er sá að í einkafyrirtækjum fer gróðinn að mestu leyti niður í vasa eigenda og birtist í munaði í einkaneyslu þeirra, dýrlega búnum heimilum, sumarbústöðum, stórum dýrum bifreiðum og svo framvegis. Tal Guðlaugs Þórs um spartanska meðferð fjármuna í einkageiranum er því út í hött. Það má vel vera að hús og aðstaða sem Orkuveita Reykjavíkur hefur búið sjálfri sér, sé of kostnaðarsöm. Þetta snýr þó að aðstöðu starfsfólks og síðan öllum almenningi, eigendum Orkuveitunnar. Peningarnir fara í almannaþjónustu. Framhjá því má ekki horfa. Hitt skal tekið undir ...
Jóel

10. Júní 2005

MINNT Á MENNINGARHÁTÍÐ BSRB Í MUNAÐARNESI


Ljáðu mér eyra eftir Önnu Hrefnudóttur.
Árleg Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi verður haldin á morgun, laugardaginn 11. júní. Á hátíðinni verður opnuð myndlistarsýning Önnu Hrefnudóttur. Skagfirska söngsveitin mun syngja og Þorsteinn frá Hamri lesa upp. Menningarhátíðin hefst kl. 14.00 og er opin öllum. Aðgangur er ókeypis og er boðið upp á veitingar...

9. Júní 2005

LEIÐTOGAR GEGN LÝÐRÆÐI?

Ef fólk er ósátt  við ríkisstjórnir gagnrýnir það þær. Að jafnaði beinist gagnrýnin ekki að fólkinu sem kaus þær. Þetta gerum við ekki vegna þess að við séum alltaf elsku sátt við kjósendur. Við gerum þetta af virðingu fyrir lýðræðinu. Eins hefði mátt halda að ríkisstjórnir og svokallaðir leiðtogar, sem komist hafa til áhrifa í samfélaginu, sýndu þeim sem þeir eiga völd sín að þakka – kjósendum – samsvarandi virðingu. Viðbrögð ýmissa forystumanna innan Evrópusambandsins við niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Frakklandi og Hollandi um nýjan ...Leiðtogar ríku iðnríkjanna nota hugtakið lýðræði gjarnan til að réttlæta hagsmuna-slagsmál í ríkjum sem búa yfir ríkulegum auðlindum, svo sem í Írak. Heima fyrir sýna þeir hins vegar að allt eru þetta orðin tóm. Gæti verið að lýðræði sé ...

9. Júní 2005

FRAMSÓKNARTENGINGIN VAR ÚTLISTUÐ HÉR Á SÍÐUNNI

Í febrúar birtist hér á síðunni lesendabréf frá Stefáni, sem ég las af athygli enda hefur komið á daginn að hagsmunatengsl Framsóknar við einkavæðinguna eru sterk og ámælisverð svo ekki sé djúpt tekið í árinni en einmitt þetta var umfjöllunarefni bréfsins. Ég hvet alla til að rifja efni þess upp. Þar sagði m.a.: "Ég hef ekki hugmynd um Ögmundur hvort bróðir Halldórs Ásgrímssonar er ennþá í stjórn VÍS (eins og hann var þegar Morgunblaðið birti úttekt sína í febrúar í fyrra) sem fékk að kaupa Búnaðarbankann með innlendum félögum og erlendum sjóðum en ætti stjórnarseta hans ekki að hafa gert fyrrverandi utanríkisráðherra vanhæfan til að koma með þeim afgerandi hætti að málinu á sínum tíma sem raun bar vitni? Ef stjórnarsetan tengist eign viðkomandi í Hesteyri ehf. sem Skinney-Þinganes, VÍS og Fiskiðjan Skagfirðingur áttu fyrir ári til jafns þá sýnist mér í ljósi “kjarnastarfsemi” VÍS í uppkaupum og áhrifum í KB banka að ástæða sé til að skoða mál þetta í fullri alvöru. Mér finnst líka fullkomlega eðlilegt að kanna hver eða hverjir eiga ...
Sunna Sara

6. Júní 2005

SÚRÁLSFRÉTTIR FALLA Á HLUSTIR STEINDAUÐRA FJÖLMIÐLA!

Þegar þú vaktir athygli á því fyrir fáeinum dögum hér á síðunni að ríkisrekið áróðursfyrirtæki væri að freista erlendra mengunarfyrirtækja að hasla sér völl á Íslandi, þá taldi ég sannast sagna að í landinu myndi skapast mikil umræða um þetta ruglaða siðleysi. En svo virðist sem fjölmiðlarnir séu dauðir og almenningur líka. Mið-Amería varð bananalýðveldi vegna fátæktar og undirokunar. Það er vesælla hlutskipti að gerast þræll – feitur og vel haldinn. Það sýnist mér ætla að ...
Haffi

5. Júní 2005

HVAÐ YRÐI UM HEIMILI SEM HAGAÐI SÉR EINS OG RÍKISSTJÓRNIN?

1990, áður en núverandi stjórnvöld tóku við völdum voru skuldir þjóðarinnar 50% af landsframleiðslunni, en í dag eu þær 250% af landsframleiðslunni, ekki tekjum, heldur landsframleiðslunni. Hvað yrði um heimili þitt ef það hagaði sér ...
Áhugamaður um þjóðmál

4. Júní 2005

"ERTU EKKI ÓSKAPLEGA VINSÆL?"

Þetta er fyrissögnin á nýlegum pistli iðnaðar- og viðskiptaáðherra Íslands, Valgerðar Sverrisdóttur á heimasíðu hennar. Hún hafði setið í flugvél með manni frá skattaparadísinni New Jersey á Ermarsundi; hún á leið til Serbíu - ekki fylgdi sögunni hverra erinda. Hann hafði verið í heimsókn á Íslandi og hrifist mjög af einkavæðingu undangenginna ára og góðvild ríkisstjórnarinnar í garð stórfyrirtækja og efnafólks. Og hér sat hann við hliðina á sjálfum ráðherranun sem hafði verið einn helsti gerandinn í þessu mikla ferli. Ekki að undra að hinn gestkomandi maður spyrði þeirrar spurningar sem brann á vörum – bæði hans og viðmælandans...

4. Júní 2005

GRÍMSSON MEÐ GRÍMU

...Daginn eftir var forsetinn grímulaus. Þá kynnti hann hugmynd um að Íslendingar fræddu Kínamenn um mannréttindi. Ráðamennina. Hættulegra væri að fræða fátækar stelpur í Kína um það hvernig varast ber íslenska arðræningja í fiskverkun.  Varla má fræða um merkingu þrælahalds og mannsals.  Varla má vara Kínverja við grímuklæddum forsetum og  grímuklæddum braskvinum þeirra. Mannréttindi hvað ?  Er ekki nóg að...
Baldur Andrésson

4. Júní 2005

Kristján Hreinsson skrifar: VIÐ FREISTINGUM GÆT ÞÍN

Mikið óskaplega er þetta nú vandræðalegt hjá blessuðum V-listanum í borgarmálunum. Fólk sér þá leið eina, að leggjast enn og aftur uppí hjá framsóknarmönnum, bjóða þeim aðgang að öllu sem þeir hafa haft aðgang að og tryggja þeim það að þeir geti áfram ausið úr brunnum borgarinnar til að kæla flokksmaskínuna sem malar og malar, alltaf á kostnað þeirra sem minna mega sín...Það er kannski kominn tími til að sameina Vg og Framsóknarflokkinn þá gætum við allavega fengið hallærislegasta nafn á stjórnmálaflokki í veraldarsögunni: Framsóknarflokkur vinstrihreyfingarinnar græns framboðs...

1. Júní 2005

MÁ BJÓÐA ÞÉR ÍBÚFEN?

...Í stefnudrögum Samfylkingarinnar um heilbrigðismál kveður við þennan sama miður geðfellda tón um að fyrirtæki í heibrigðisþjónustu eigi að keppa um athygli ( og væntanlega einnig peninga ) sjúks fólks: Auka beri "hagkvæmni, skilvirkni og samkeppni á milli heilbrigðisstofnana..." Og um einkareksturinn almennt segir: "Einkarekstur er öflugt tæki gegn biðlistum og eykur valkosti, hagkvæmni og starfsánægju í heilbrigðiskerfinu." Auðvitað á maður ekki að verða forviða að heyra yfirlýsingu af þessu tagi frá Samfylkingunni...

31. Maí 2005

Kristján Hreinsson skrifar: HIÐ ÓHÁÐA AFL

...Ég hef áður sagt, að það að vera stöðugt að agnúast útí framsóknarmenn í ríkisstjórn en vera síðan í borgarstjórn með sama flokki, sé einsog að bölva mafíunni en vera í vígðri sambúð með Al Capone. Og ég er viss um að þessi samlíking er sannari en svo að henni megi gleyma...Mikill fjöldi manna hér í borg hefur hug á að gera andlit hinna óháðu sýnilegt og menn vita það margir hverjir að þegar kemur að því að efla R-listann þá eru óháðir það afl sem til þarf...Ég mæli með því, að þeir sem skipa umræðuhópa Vg og Samfylkingar, boði á sinn fund fulltrúa óháðra. Þannig held ég að skapa megi trúverðuga einingu um ...

31. Maí 2005

HJÁLMAR SETJIST VIÐ SKRIFTIR

...Fréttablaðið á mikið lof skilið fyrir vasklega framgöngu, og þá sérstaklega Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fyrir rannsóknarfréttamennsku sína. Ég er hins vegar hræddur um að Hjálmar Árnason þurfi að klóra sér svolítið í höfðinu, maðurinn sem fór hörðum orðum um gagnrýni okkar stjórnarandstöðuþingmanna á þau atriði sem Fréttablaðið hefur nú gert að ítarlegu umfjöllunarefni og sýnt fram á að ásakanir okkar voru á rökum reistar. Í fyrrenfndum pistli sínum dró Hjálmar hvergi af sér í hneyksaln yfir...

30. Maí 2005

"SJÁLFSTÆÐIR RÁÐGJAFAR" STINGA UPP Á SÚRÁLSVERKSMIÐJU

Fari menn á vefinn invest.is má fá upplýsingar um "sjálfstætt ráðgjafafyrirtæki" á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins ... Þarna er heitið trúnaði við fjárfesta. En hvað með trúnað við íslensku þjóðina og hagsmuni hennar? Fyrir nokkrum dögum voru fjárfestar hvattir til þess á þessari síðu, invest.is, að íhuga að fjárfesta í ...

30. Maí 2005

STÖNDUM MEÐ TRÚNAÐARMÖNNUM VIÐ KÁRAHNJÚKA


Forsvarsmenn norrænu verkalýðshreyfingarinnar héldu fund í Reykjavík í síðustu viku en í framhaldinu var efnt til ferðar að Kárahnjúkum til þess að kynnast aðstæðum þar og ræða við trúnaðarmenn launamanna á virkjunarsvæðinu. Efni Reykjavíkurfundarins rímaði prýðilega við þessa heimsókn því á honum var m.a. fjallað um vandamál sem fylgdu erlendum verktakafyrirtækjum og tilraunum þeirra til að draga úr tilkostnaði með því að færa kjör launafólksins eins langt niður og nokkur kostur er...Oddur Friðriksson, aðaltrúnaðarmaður Alþýðusambandsins við Kárahnjúka fór með okkur um svæðið og leiddi okkur í allan sannleika um stöðu mála. Hann og félagar hans eiga þakkir skildar fyrir vel unnin störf og það mega þeir vita að þeir hafa alla íslensku verkalýðshreyfinguna ...

29. Maí 2005

EINKAVÆÐINGARFLOKKARNIR TVEIR: SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR OG SAMFYLKING

...Í grein sinni rekur Ólafur Örn Arnarsson mjög skilmerkilega hvernig bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tala fyrir einkarekstri og samkeppni innan heilbrigðisþjónustunnar. Ekki  ætla ég  að hrekja ýmsar fullyrðingar læknisins um meinta kosti einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu ...Það er hins vegar þakkarvert að okkur sé bent á að enginn munur sé á Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu þegar kemur að einkavæðingu velferðarþjónustunnar. Þetta hlýtur að verða umhugsunarefni þeim kjósendum sem vilja...

28. Maí 2005

GÚLAG ÍSLENSKRA STJÓRNMÁLA?

...Er ekki  eitthvað bogið við það þegar aðeins helmingur "flokksbundinna" manna kýs í formannskjöri í flokki sem hefur ekki hugsað um annað í fleiri mánuði? Þrátt fyrir auglýsingastofur og tugi launaðra manna við að reka áróður í formannskjöri er uppskeran rýr. Mín tilfinning er að Samfylkingin sé orðin að pólitískum fangabúðum, eins konar pólitísku Gúlagi þaðan sem fólk á ekki afturkvæmt hafi það einu sinni stigið inn fyrir þröskuldinn. Þess vegna beini ég þeirri spurningu til ...
Sunna Sara

28. Maí 2005

UM MENN SEM "ANNAST YFIRHEYRSLUR"

Morgun-
blaðið birtir í laugardags-
blaðinu ágæta frétt um ásakanir sem fram hafa komið að Kóraninn hafi verið óvirtur í fangabúðum Bandaríkja-
manna í Guantanamo til að ögra múslímskum föngum þar... Óhug setti að mörgum við að verða vitni að því að jafnöflugum fjölmiðli og menn töldu Newsweek vera væri sagt fyrir verkum á þennan hátt: Við erum komin ískyggilega nærri því að bandarísk stjórnvöld komist upp með að láta endurskrifa söguna. Eða skyldi fólk vera búið að gleyma því þegar menn voru þurrkaðir af ljósmyndum austur í Sovét þegar ekki hentaði hagsmunum ráðamanna að þeir hefðu verið til!  Á fréttamannafundinum sem Morgunblaðið greinir hér frá kemur fram að ásakanir um að Kóraninn hafi verið svívirtur ... reyndist vera rétt þótt ...

27. Maí 2005

SPURNING TIL MORGUNBLAÐSINS: HVAÐ VARÐ UM UMRÆÐUNA UM STÓRIÐJU?

Birtist í Morgunblaðinu 26.05.05
...Hlálegast finnst mér þó að heyra gallharða hægri sinnaða frjálshyggjumenn óskapast yfir afskiptum ríkisins af atvinnurekstri og niðurgreiðslum til landbúnaðar. Þetta eru sömu aðilar og lagt hafa blessun sína yfir stórfelldustu ríkisafskipti Íslandssögunnar, því Kárahnjúkavirkjun er að sjálfsögðu ríkisframkvæmd, eru reiðbúnir að niðurgreiða raforku til erlendra auðhringa, veita þeim skattfríðindi umfram íslensk fyrirtæki og fórna hagsmunum íslensks atvinnureksturs í þeirra þágu...

25. Maí 2005

Hjörtur Hjartarson skrifar: STJÓRNARANDSTAÐA ÓSKAST

MORGUNBLAÐIÐ sagði í leiðara 28. apríl: "Það er ekki hægt að búa til sérstakan forréttindahóp í landinu, sem nýtur allt annarra og betri kjara en almennt gerist - ríflegra eftirlauna þrátt fyrir að vera í fullu starfi á ágætum launum hjá sama vinnuveitanda. Það er ekki hægt að misbjóða almenningi með þessum hætti." Víst er það hægt. Formenn stjórnmálaflokkanna lögðu á ráðin með Davíð Oddssyni um einmitt þetta, sjálfum sér til handa - og hafa komist upp með það. Kattarþvottur á eftirlaunalögunum frá í desember 2003...Á Alþingi Íslendinga er engin stjórnarandstaða. Því er ekki að undra hömluleysið: Eigur almennings færðar útvöldum gegnum einkavæðingu; hefndarlög um fjölmiðla; lög um að ríkislögregla geti án dómsúrskurðar hlerað við hverja borgararnir tala; löglaus og siðlaus stuðningur við árásarstríð...

25. Maí 2005

TVEIR MENN Í EINUM? NÝJUSTU FREGNIR AF AÐSTOÐARMANNI FORSÆTISRÁÐHERRA

...Maður hlýtur að velta því fyrir sér hvort það sé æskileg blanda að í einum og sama manninum birtist okkur einn daginn æruverðugur aðstoðarmaður hæstvirts forsætisráðherra en hinn næsta sannkallaður hrokagikkur, já valdhrokinn uppmálaður, við skriftir á veraldarvefnum þegar pólitískir andstæðingar eiga í hlut. Þá hagar aðstoðarmaðurinn sér eins og óuppdreginn uppalingur í fámennum félagsskap – í réttnefndri klíku – og sést ekki fyrir í vitleysisgangi sínum. Um það hversu heppilegt þetta fyrirkomulag er og hvort að það getur yfirleitt gengið upp verður hver og einn að dæma...
Þjóðólfur

25. Maí 2005

OLÍUFÉLÖG AXLA ÁBYRGÐ


Í nóvember á síðasta ári var það gert að umræðuefni á þessari síðu að fyrir botni Hvalfjarðar væru olíutankar í eigu  NATÓ og íslensku olíufélaganna. Svo væri að skilja að NATÓ hugsaði vel um sína tanka en öðru máli gegndi um olíufélögin. Þau létu sína tanka drabbast niður. Ryðgaðir tankarnir blöstu við...DV tók málið upp og spurði hvort ekki þyrfti eitthvað að aðhafast í málinu. Nú hefur það gerst - annað er ekki að sjá en verið sé að taka niður tankana, alla vega einhverja þeirra. Þessu ber að fagna. Þökk sé ...

24. Maí 2005

HVERS VEGNA ER BJÓÐENDUM Í SÍMANN MISMUNAÐ?

...Í samræmi við þetta var frá því skýrt að Kögun hf. hefði verið hafnað sem hugsanlegum bjóðanda, vegna slíkra eignatengsla. En viti menn, í frétt sem  birtist í Morgunblaðinu í dag er svo að skilja að þetta hafi ekki átt við um alla því nú er okkur sagt að bjóðendur muni eiga þess kost að breyta eigin skipulagi hafi þeir ekki staðist skilyrðin. Það á með öðrum orðum að breyta reglunum eftir á fyrir tiltekna aðila ...Hvers vegna hinn pólitíska klæðskerasaum? Gæti frjálshyggjudeild Sjálfstæðisflokksins vinsamlegast svaraða þeirri spurningu...

24. Maí 2005

HUGMYNDIR KOMNAR TIL ÁRA SINNA?

Ég vil spyrja þig Ögmundur hvort þú hafir engar áhyggjur af stöðu Ríkisútvarpsins - og fjáraustri þar á bæ- 3 milljarðar á hverju ári í rekstur útvarpsins. Eins vil ég spyrja þig hvort þú meinir það í fullri einlægni að allir einkamiðlarnir séu að framleiða sama poppið eða hvort verið geti að þetta svar þitt sé komið til ára sinna....
Helga Vala           

20. Maí 2005

ÞAÐ ÞARF EKKERT AÐ BIÐJAST AFSÖKUNAR Á GAMLA RÚV

Gunnar Smári Egilsson, hæstráðandi á 365 fjölmiðlum, kom fram í Spegli fréttatíma Hljóðvarpsins og tjáði sig um framtíð íslenskra fjölmiðla. Hann sagði frá nýjum fjölmiðlum sem væru að fæðast á vegum fyrirtækisins, einn á morgun, annar í næstu viku, framtíðin væri björt. Er pláss fyrir áframhaldandi fjölgun fjölmiðla á ykkar snærum, spurði fréttakona. Já, sagði Gunnar Smári. Þetta væri allt saman spurning um nýtingu fjármuna. Einkareknu fjölmiðlarnir nýttu þá vel, ríkið illa...Fjölgun útvarpsstöðva hefur ekki aukið fjölbreytni. Þvert á móti þá hefur fjölgun stöðva dregið úr fjölbreytninni...Sjálfbirgingslegt tal forsvarsmanna fjölmiðla sem fremur eru á yfirborðið en dýptina er hins vegar ekki sannfærandi...

19. Maí 2005

SAMFYLKINGIN OG TALIÐ UM ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU

Danski rithöfundurinn, Hans Scherfig, sagði einhvern tímann að sumir skrifuðu um lífið, aðrir skrifuðu um þá sem skrifuðu um lífið, en svo væru til þeir sem lifðu lífinu. Mér kemur þetta í hug þegar ég heyri Samfylkinguna tala um lýðræðið. Gott ef það var ekki Framtíðarhópur Samfylkingarinnar sem nú síðast talar um mikilvægi þess að þjóðin greiði atkvæði um allt bæði stórt og smátt. Alla vega talar þessi hópur mikið um lýðræði. Það hefur Samfylkingin reyndar oft gert á undanförnum árum. Meira að segja á mjög hástemmdan hátt. Það er svo mikilvægt að þjóðin fái að ráða, segja flokksmenn gjarnan á málfundum og í greinaskrifum. En síðan þegar á hólminn kemur og látið er á það reyna hver vilji manna raunverulega er, þá hefur því miður annað verið uppi á...

19. Maí 2005

SÝNUM SAMSTÖÐU GEGN SKEMMDARVERKUM

Birtist í Morgunblaðinu 18.05.05.
Listaverk Steinunnar Þórarinsdóttur hafa sett skemmtilegan listrænan svip á torgið fyrir framan Hallgrímskirkju frá því það var sett upp í júní í fyrra. Þætti mér fara vel á því að Reykjavíkurborg festi kaup á styttunum þannig að þær yrðu til frambúðar á þessum stað. Listaverkin yrðu auk þess táknræn fyrir samstöðu borgarbúa gegn spellvirkjum. Við eigum ekki að gefast upp gagnvart ofbeldi af þessu tagi. Sýnum vilja okkar í ...

18. Maí 2005

TÍMINN.IS OG SANNLEIKURINN

...Nú væri fróðlegt að heyra frekari útleggingar þeirra Tímamanna á sannleikanum. ...Sá grunur læðist þó að mér að svo ósjálfstæðir kunni þeir að vera í hugsun, að hafi Ísland átt samleið með Norðurlöndunum eða öðrum Evrópuríkjum í alþjóðlegu deilumáli, þá sé það hafið yfir gagnrýni....Tímaskrifarar rifja upp þá tíð þegar ég gegndi starfi fréttaskýranda erlendra frétta hjá RÚV. Iðulega leitaði ég þá til þeirra manna um framlag sem fróðastir voru taldir um utanríkismál. Í þeim hópi, og reyndar í sérstöku uppáhaldi hjá mér, var Þórarinn Þórarinsson, fyrrum ritstjóri Tímans. Hann var í senn víðsýnn og sjálfstæður í hugsun. Einnig fyrir Íslands hönd. Það er af sem áður var á þeim bænum...

18. Maí 2005

Þorleifur Óskarsson skrifar: FRÉTTASKÝRINGAR ÚR FORSÆTISRÁÐUNEYTI

...Í nýjasta framlagi Björns Inga sækir hann, að eigin sögn að minnsta kosti, í smiðju Ólafs heitins Jóhannessonar, fyrrum forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, til að lýsa ... Allt um það, með palladóminum er vitanlega ætlunin að koma enn höggi á formann BSRB. Er ekki að sökum að spyrja að í meginlýsingunni, sem Björn Ingi hefur að eigin sögn fengið að láni hjá Ólafi, hittir hann fyrst og fremst sjálfan sig fyrir. Gefum aðstoðarmanni Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra orðið og skoðum kjarnabútinn litla sem hann eignar Ólafi heitnum Jóhannessyni...

17. Maí 2005

SKORINORÐ SPURNING

Ert þú á móti Baugsmönnum...?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir

17. Maí 2005

VARA VIÐ MONT BLANC, MÆLI MEÐ FLETTISKILTI

Nú birtist í fréttum að forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, fyrrverandi varaformaður Framsóknar og fleiri ætli að klífa Mont Blanc í sumar. Ég er strax farinn að hlakka til að fá að fylgjast með fjallgöngunni í máli og myndum. Ég vona að fjölmiðlar hafi gert ráðstafanir. Gleði mín er þó blandin áhyggjum og langar mig til að koma hógværri spurningu á framfæri við spunamenn Halldórs. Gæti verið að menn ættu...
Nonni

16. Maí 2005

ÞÖRF Á PÓLITÍSKRI GJÖRGÆSLU

Birtist í Morgunblaðinu 15.05.05
...Ráðherrann talaði af miklum hroka niður til stofnana í almannaþjónustu. Þær hefðu gengið of langt í umsögnum sínum um stjórnarfrumvörp og væru þær Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, og hún um þetta sammála. Þessar stofnanir hefðu leyft sér að tjá sig um lagafrumvörp frá ríkisstjórninni á gagnrýnin hátt. Þannig hefði Umhverfisstofnun gengið of langt í umsögn sinni um vatnalög og Samkeppnisstofnun um samkeppnislög. Opinberum stofnunum bæri að "taka tillit til þeirra skilaboða sem koma frá stjórnvöldum", sagði Valgerður Sverrisdóttir í viðtali við...

15. Maí 2005

Í HEIMSÓKN HJÁ EINARI K.: SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Í GREIPUM HUGMYNDAFRÆÐI

Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Einar K. Guðfinnsson, rekur kröftuga og ágæta heimasíðu. Sjaldan er ég sammála þeim skrifum sem þar birtast. Þó bregður svo við nú að ég er sammála hverju orði í grein sem nú getur að líta á ekg.is . Reyndar væri undarlegt ef svo væri ekki því greinin er eftir sjálfan mig og fjallar um þá hugmyndafræðilegu úlfakreppu sem Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í. Að mínu mati er flokkurinn að verða ófær um að taka afstöðu til mála á grundvelli praktískra sjónarmiða því svo haldinn er hann þeirri þráhyggjukreddu að ...Sjálfstæðisflokkurinn íslenski er ekki einn um þessa nálgun, því fer fjarri. Í Bretlandi er nýbúið að kjósa forsætisráðherra, sem er haldinn nákvæmlega sömu hægri þráhyggjunni. Mér er sagt að Samfylkingin gæti verið í þann veginn að kjósa sér formann sem lýsir því yfir að hún fylgi áþekkri stefnu og Blair hinn breski. Þessu hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lýst yfir. Össur Skarphéðinsson hefur hins vegar sagt að ...

15. Maí 2005

Í VÍKING TIL KÍNA

...Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að það séu mikil forréttindi fyrir Íslendinga að fá að heimsækja Kína og að forsetaheimsóknin nú sé líklega ein sú mikilvægasta sem forseti hafi farið í um árabili....Ég verð alltaf jafn dapur þegar ég heyri frá stærsta fasistafokki heimsins, sem fótumtreður réttindi verkafólks og bænda og kallar sig kommúnistaflokk. Síðan bíða hin svokölluðu lýðræðisríki í röðum að fá að hitta böðlana í von um skjótfenginn gróða....
Rúnki marxisti

14. Maí 2005

ÞIÐ KUNNIÐ ÞAÐ KOMMARNIR BEST, AÐ LJÚGA MARGFALT Í MÁLI OG MYNDUM

....Mér var bent á það áðan að þú værir að birta myndir á heimasíðu þinni sem ég tók núna á dögunum á árshátíð Hrútavinafélagsins. Og hvílíkur spuni sem upp úr þér gengur í kringum myndirnar mínar, undir fyrirsögninni: Heimsforystan fest á filmu. Og svo bítur þú höfuðið af skömminni með því að eigna þær allar blaðasnápnum Steingrími Ólafssyni sem ekki þekkir muninn á fallegum hrúti og fljúgandi snjótittlingi, eins og raunar allt of títt er um unga framsóknarmenn nú á dögum. Áður en ég skrifa reikninginn á þig upp á höfundarlaunin vegna myndanna vil ég greina frá því ágæta fólki sem prýðir myndirnar mínar og er á tali við forsætisráðherra sem var heiðursgestur ...
Þórður Bogi Bogason

14. Maí 2005

KAMARINN

Við Austurvöll stendur hin háreista höll,
til hliðar er gráleitur kamar
með saurkólígerlanna ógrynnin öll
og enginn vill koma þar framar.
Kristján Hreinsson, skáld

13. Maí 2005

NÚ VANTAR ALMENNILEGA SKÝRSLU UM EINKAVÆÐINGU

...En nú eru fleiri að átta sig á spillingunni og meira að segja grandvarir íhaldsmenn farnir að tala um “þjóðarrán” enda þótt þeir séu alls ekki andvígir einkavæðingu sem slíkri. Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar gera sér grein fyrir því að mikilvægt er að kæfa þessar raddir í fæðingu. Til þess berja þeir öfundar-bumbuna sína áfram en slá einnig á milda og ómþýða strengi gegn uppreisn íhaldsins. Gamalkunnum tónum, sem nú eru slegnir, er ætlað að sýna og sanna að úr því að fræðin segi að allir græði á einkavæðingunni þá skipti aðferðafræðin við hana og söluverð einstakra eigna nákvæmlega engu máli. Þetta nýmixaða tónverk flytur Bergþór Skúlason á netmálgagni Framsóknarflokksins, timinn.is, 6. maí síðastliðinn. Aðalstefið í verki Bergþórs er að...
Þjóðólfur

12. Maí 2005

ER EKKI HÆGT AÐ LYFTA HÆSTVIRTUM FORSETA UPP Á ÖRLÍTIÐ HÆRRA PLAN?

Ég fylgdist með eldhúsdagsumræðunum að venju og hafði bæði gagn og gaman af. Ræðumaður kvöldsins var að mínu mati tvímælalaust Össur Skarphéðinsson og finnst mér sífellt vænna um þann mann, eins og hann fór nú í mínar fínustu hér í denn þegar hann var eins og minkur í hæsnabúi Alþýðubandalagsins sáluga. En erindið var annars ekki að tjá vaxandi væntumþykju mína á Össuri heldur hitt að kvarta undan þeim truflandi bakgrunni sem áhorfendum er boðið upp á þegar sjónvarpað er frá Alþingi. Að baki ræðumanna ...
Hjálmar Þorsteinsson

12. Maí 2005

HEIMSFORYSTAN FEST Á FILMU

...einnig hitt að í föruneyti forsætisráðherrans var Steingrímur Ólafsson, fyrrum fréttamaður sem gegnir nýrri stöðu í forsætisráðuneytinu. Hann hefur þann starfa með höndum að koma formanni Framsóknar-
flokksins á framfæri við þjóð sína. Flestir fjölmiðlarnir sem síðustu daga hafa birt myndir af Halldóri með Bush Bandaríkjaforseta , Halldóri með Pútín Rússlandsforseta, Halldóri með Junichiro Koizumi forsætisráðherra Japans, Halldóri með Jacques Chirac forseta Frakklands, og kanslarahjónum Þýskalands, þeim Gerhard Schröder og frú Doris Schröder-Köpf., hafa látið þess getið að hirðljósmyndari forsætisráðherra Framsóknarflokksins á Íslandi, Steingrímur Ólafsson, hafi tekið myndirnar.

11. Maí 2005

STJÓRNARLIÐAR Í STUÐI

Þú sagðir í ræðu þinni á eldhúsdeginum að vandinn við fólk sem stundar partý í óhófi sé sá að það missi hæfileikann til að skoða umhverfi sitt af raunsæi, það missi fókusinn á veruleikann. Þetta sannaðist rækilega í ræðum stjórnarsinna, allar með tölu voru þær því marki brenndar að aumingja fólkið er greinilega enn í dúndrandi afmælisvímu eftir tíu ára samstarfsafmælið á dögunum. Skemmtilegasta dæmið þar um fannst mér innkoma Guðna landbúnaðarráðherra. Hann birtist sem jafnan fyrr eins og skrattinn úr heiðskíru lofti og byrjaði lofræðu sína um ríkisstjórnina á því að segjast hafa tekið sérstaklega eftir því að þú hefðir í ræðu þinni ekki vikið einu orði að Stalín. Ekki skildi ég alveg samhengið þarna hjá Guðna. Getur verið að hann sé ...
Guðfinna

10. Maí 2005

ALÞINGI Í ELDHÚSI

...En vandinn við fólk sem er í stöðugum partýjum er sá að það glatar hæfileikanum til að skoða umhverfi sitt af raunsæi – það hættir að sjá hlutina í fókus - til dæmis er augljóst að ríkisstjórnin er orðin ófær um að sjá misskiptinguna í landinu. Henni er farið líkt og Landsbankamönnum, sem segja í auglýsingum að, Aðeins einn geti komið í veg fyrir að þú eyðir í sparnað – það sért þú sjálfur. Er það svo? Leggur láglaunamaður eða öryrki á strípuðum bótum ekki  til hliðar eða fjárfestir  hann ekki í hlutabréfum vegna þess að hann er áhugalaus um að spara? Eða getur verið, og er það ekki öllu líklegra, að láglaunamaðurinn eða atvinnulaus maður með 91.426 kr. á mánuði eyði ekki í sparnað, eins og það er kallað, einfaldlega vegna þess ...

8. Maí 2005

RÚV OG FRÆÐSLUGILDIÐ

...Þegar skoðaður er listi yfir þá hagsmunaaðila sem fengu nýtt frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið til umsagnar er þar langur listi samtaka “menningarvita” en einungis einn aðili til umsagnar um fræðslugildi, Hagþenkir. Til að fyllsta jafnræðis sé gætt ætti hið minnsta að senda frumvarpið til umsagnar hjá Reykjavíkurakademíu, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Kennarasambandinu o.s.frv. Af þessu má ljóst vera að viðhorfsbreytinga er þörf ekki síður í ...
Á.Þ.

7. Maí 2005

RÆND ÆSKUNNI OG LÍFINU

Síðastliðinn miðvikudag voru tvö palestínsk ungmenni skotin til bana í Beit Liqya, bæ vestur af Ramallah. Jamal Jaber, 15 ára og Uday Mofeed, 14 ára, létust reyndar ekki samstundis. Þeim blæddi út á leiðinni á sjúkrahús. Sjúkrabíllinn tafðist nefnilega, eða öllu heldur...Samkvæmt könnun sem gerð var á vegum UNICEF árið 2003 lifa 93% þeirra barna, sem könnunin náði til, í stöðugum ótta við að á þau verði ráðist eða að eitthvað hræðilegt muni henda þau...

6. Maí 2005

JÁ, HVAR VAR ÖGMUNDUR EIGINLEGA OG HVAR VAR HANN BJÖRN INGI?

...Á heimasíðu sinni ræðst Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, að Ögmundi Jónassyni vegna framlags hans á útifundinum í Reykjavík á baráttudegi launafólks, 1. maí. Björn Ingi spyr fyrst með þjósti og varpar síðan nokkrum fúleggjum eins og ungum framsóknarmönnum er svo tamt í seinni tíð. Svona líta kræsingar aðstoðarmanns forsætisráðherra út, orðrétt... Að mínum dómi er það meira en skiljanlegt að ræða Ögmundar hafi farið fyrir brjóstið á Birni Inga og kumpánum hans - það er í hæsta máta eðlilegt að talsmenn gróðahyggjuaflanna fari með fúkyrðaflaumi og ...Ljóst er hins vegar að hann fór ekki með nein ósannindi um hvað húsbændurnir á stjórnarheimilinu töluðu ekki um á afmælisfundinum, ef marka má umfjöllun Morgunblaðsins 23. apríl síðastliðinn. Það getur Björn Ingi sannreynt ef hann kærir sig um. Afmælisfagnaðinn allan ...
Þjóðólfur

6. Maí 2005

FRAMSÓKN Á MÓTI - BSRB?

Sjálfstæðisflokkurinn má eiga það að hann hefur getað tekið gagnrýni á sínar gjörðir frá verkalýðshreyfingunni, þar með talið BSRB. Bandalagið, BSRB, sem ég veiti formennsku hefur verið mjög varfærið þegar umdeild þjóðfélagsmál eru annars vegar en tekið afdráttarlausa afstöðu í málum sem samstaða hefur verið um að samtökin beiti sér í...Því kunna Framsóknarmenn ekki að taka. Aðstoðarmaður forsætisráðherrans, Björn Ingi Hrafnsson ríður á vaðið og gerir því skóna að ég misnoti BSRB. Hvers vegna í ósköpunum ég hafi ekki sagt frá afrekum ríkisstjórnarinnar á baráttudegi verkalýðsins...Árásir Framsóknarmanna á BSRB marka ákveðin tímamót. Ég kveinka mér ekki undan gagnrýni í minn garð. En tilraunir til að sverta BSRB og gera lítið úr starfi samtakanna þykja mér mjög ámælisverðar og þeim einstaklingum sem í hlut eiga til minnkunar.

6. Maí 2005

RÚV-FRUMVARP RÍKISSTJÓRNARINNAR AFSPRENGI ÁGREININGS

Birtist í Morgunblaðinu 05.05.05.
Lykillinn að skilningi að þessu frumvarpi er að gera sér grein fyrir því að það er sprottið upp úr ágreiningi en ekki samvinnu. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra og er fólgin í þessu mikil uppgjöf gagnvart erfiðu en mikilvægu viðfangsefni. Sjálfstæðisflokkurinn vill helst gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi og dengja því út á almennan viðskiptamarkað. Því er Framsóknarflokkurinn andvígur, hann vill ekki gera RÚV að hlutafélagi, hvað þá selja stofnunina. Útkoman er einhver undarlegasti bastarður síðari tíma lagasmíðar. Tillaga um stjórn stofnunarinnar ber þessa merki. Þar er blanda af póltískri kosningu af því tagi sem nú er og ...

5. Maí 2005

TILLÖGUR VG UM RÍKISÚTVARPIÐ

Birtist í Morgunblaðinu 04.05.05.
...Eðlilegt hefði verið að samhliða frumvarpi ríkisstjórnarinnar hefðu önnur þingmál um Ríkisútvarpið, þingmál Samfylkingar og Frjálslyndaflokksins, auk frumvarps VG verið send umsagnaraðilum þannig að þeir gætu vegið og metið þær hugmyndir sem lægju fyrir Alþingi. Ég er sannfærður um að stjórnarmeirihluti sem hefði trú á eigin frumvarpi þyrði að láta slíkan samanburð fara fram. Skortur á  sjálfstrausti hvað þetta varðar er vísbending um að frumvarpshöfundar óttist að samanburður gæti reynst þeim óhagstæður...Í frumvarpi VG um Ríkisútvarpið er að finna fjölmörg nýmæli. Við teljum að með frumvarpinu yrðu sniðnir af margir vankantar sem nú eru taldir vera á lagaumgjörð Ríkisútvarpsins...

4. Maí 2005

U-BEYGJA UM UTANRÍKISMÁL

Málgagn Ungra Vinstri Grænna U-Beygjan sýnir mér þann heiður að taka við mig viðtal um utanríkismál þar sem sérstaklega er fjallað um Alþjóðabankann og Alþjóðagjaldeyrssjóðinn. Þar kemur m.a. fram að :...Þegar fátæku ríkin hafa selt grunnþjónustu sína eru þau ofurseld fyrrum lánveitendum sínum sem nú eru komnir í aðstöðu til að græða á þeim; græða á sömu löndum og þeir voru að lána til. Þannig bera menn sig að við að koma heilum þjóðfélögum undir hælinn á auðvaldinu...Ég er mjög bjartsýnn á að málstaður vinstrimanna sé í sókn enda byggður á traustum málefnalegum grunni auk þess sem reynslan er okkur í hag. Við eigum ekki að sleppa hægrimönnum við að skoða eigin spor og afleiðingar gerða sinna...

4. Maí 2005

BÆÐI ÁGÆT, EN HVORUGT NÓGU GOTT!

Ég reyni að fylgjast með öllu sem ég sé um formannskjörið í Samfylkingunni. Margt vekur þar athygli mína og undrun. T.d. að enginn skuli segja það sem mér finnst vera kjarni málsins... Gaman væri að heyra þitt álit....Menn minnast þess einnig að enginn vildi byrja við stýrið þegar Samfylkingin var stofnuð nema hann. Ingibjörg lét þá hvergi sjá sig og stundaði það reyndar á þeim tíma að sverja Samfylkinguna af sér...En það sem ég ætlaði að nefna er að sonur minn, sem er í tónlistarnámi, hann fékk allt í einu sendan atkvæðaseðil í þessari formannskosningu hjá Samfylkingunni án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Hann heldur helst að einn bekkjarfélagi sinn hafi skráð hann eða jafnvel einn kennarinn sem er í Samfylkingunni. Ég hef velt því fyrir mér hvort ...
J.G. fyrrv. Kvennalistakona

3. Maí 2005

Páll H. Hannesson skrifar: ALMANNAÞJÓNUSTA Á TÍMUM ALÞJÓÐAVÆÐINGAR

...Þessi bylgja hefur farið eins og eldur í sinu um heiminn eins og menn kannast við og við hér heima höfum átt okkar ötulu fulltrúa. Við könnumst sennilega mörg við að hugmyndir þeirra þóttu nokkuð sérlundaðar ef ekki fráleitar fyrir tuttugu árum en í dag hafa þær margar náð þeirri stöðu að teljast jafnvel til pólitísks rétttrúnaðar og í miklu uppáhaldi hjá ýmsum stjórnmálamönnum. Eftir áralangan velting á hugtökum og umræður í fjölmiðlum þá er svo komið að það sem þótti fráleitt eða umdeilanlegt, þykir bara í lagi í dag. Og við erum sjálf farin að spyrja af hverju ætti ríkið að eiga og reka sementsverksmiðju eða Símann eða sveitarfélögin Bæjarútgerð! Það er ekki hlutverk hins opinbera, eða hvað...?

2. Maí 2005

SAMMÁLA ÁRNA GUÐMUNDSSYNI UM DYLGJUR ÚR RÁÐUNEYTI

Ég var mjög sammála formanni félagsins míns, Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, þar sem hann mótmælir ruglinu úr aðstoðarmanni Halldórs Ásgrímssonar, Birni Inga Hrafnssyni. Hann leyfir sér að gera því skóna á skrifum á heimasíðu, sem síðan hefur verið haft eftir í blöðum, að varðstaða BSRB um almannaþjónustu og mannréttindi sé eitthvert þröngt pólitískt hagsmunapot frá þér komið Ögmundur...Skyldi þetta vera gert með vitund og vilja ráðherrans? Ég hvet fólk til að sjá hvernig Árni vísar dylgjum Björns Inga til föðurhúsanna. Það má sjá hér...
Hafnfirðingur í BSRB

1. Maí 2005

1. MAÍ ÁVARP Á INGÓLFSTORGI Í REYKJAVÍK

...En við skulum ekki bara verjast. Við skulum snúa vörn í sókn og minnumst þess að þegar það gerist, að menn hætta að láta blekkjast af umgjörð valdanna – stórum skrifstofum, fínum titlum og einkabílstjórum - þegar fólk rís upp, hvort sem er inni á vinnustaðnum eða í þjóðfélaginu almennt og segir hvað það vill og til hvers það ætlast – þá gerist það: Völdin færast til – keisarar verða klæðalausir og mega sín lítils gegn samstöðu þeirra sem neita að láta ráðskast með sig. Gerum þennan dag, baráttudag verkalýðsins, að upphafi nýrrar sóknar...

1. Maí 2005

1. MAÍ ÁVARP Í HAFNARFIRÐI: HÖLDUM HÓPINN

... Sleppum aldrei. Ef við getum ekki reist þann við sem hrasar, þá þurfum við ekkert að leiðast lengur. Þá fer hver sína leið. En við skulum halda hópinn. Fyrsti maí er baráttudagur verkalýðsins – hann er sá dagur þar sem við minnumst þess hvers virði samstaðan er. Á þessum degi strengjum við þess heit að standa saman. Góðir félagar. Stöndum saman um að gera þjóðfélagið betra og réttlátara...

1. Maí 2005

1. MAÍ Í GRAFARVOGSKIRKJU: Á AÐ BJÓÐA HINN VANGANN?

...Þegar svara skal spurningum um réttlæti og hefnd gerist áleitið að spyrja hvort jafna megi saman annars vegar ríki og hins vegar einstakri mannpersónu; hvort rétt sé að meta ábyrgð ríkisins og einstaklingsins á sama mælikvarða...?

1. Maí 2005

ÚT VIL EK

...Íslendingarinir verða í skrýtinni stöðu. Í Afganistan njóta þeir stöðu hermanna sem væru þeir hluti af innrásarliðinu. Á herlausu Íslandi eru þeir þó óbreyttir borgarar. Þeir eru ýmisst eða, bæði og ! Huggun er að þúsundir málaliða og vígamanna frá ýmsum löndum starfa í Afganistan á svipuðum forsendum. Landið er löglaust og þar talar vopnavaldið. Þar skipta íslensk lög eða alþjóðalög engu máli. Hver bjargar sér sem best hann kann með hönd á gikk. Framlag Íslands er þjónusta við heimsveldið sem ber ábyrgð á hernámssvæðinu Afganistan. Vonandi meiða Íslendingarnir hvorki sjálfa sig né aðra við ...
Baldur

1. Maí 2005

Birtist á Morgunpósti VG: 1. MAÍ ER OKKAR DAGUR

...Það merkilega við þennan dag er samstaðan. Í dag komum við saman í útvarpsþætti á Ríkisútvarpinu, Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Ingibjörg Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ og ég sem formaður BSRB. Öll höfum við starfað ágætlega saman sem einstaklingar. En þótt þau samtök sem við erum í forsvari fyrir hafi haft gott samstarf um margt, er því ekki að leyna að ekki höfum við verið sammála um alla hluti. Einu get ég þó lofað fólki, að þegar við leiðum okkar hesta saman í umræðu á þessum degi, munum við ekki einblína á það sem sundrar okkar samtökum heldur hitt sem sameinar okkur. Þetta er galdurinn við 1. maí. Því eins og áður segir þá er þessi dagur, 1. maí, dagur samstöðunnar...

30. Apríl 2005

Drífa Snædal skrifar: STÉTT OG KYN

...Alltaf þegar kvennabaráttan rís hátt verður andstaðan við hana og gagnrýnin líka sýnileg og konur eru settar í þá stöðu að verja baráttuna og  púðrið sem fer í hana. Því miður gerist þetta jafnt meðal sósíalista og kapítalista. Í einstaklingsmiðaða samfélaginu okkar er sjónum núna beint að körlunum sem eru á tekjubotninum og afanum sem þorir ekki lengur að knúsa barnabörnin sín af því femínistar  fara offari ...Háskólar eru fullir af konum að reyna að hífa upp skammarleg laun með því að afla sér aukinnar menntunar, en hún skilar sér einfaldlega ekki. Þetta er orðin svo gömul tugga að hún er varla með bragði lengur, þess vegna verður að ...

30. Apríl 2005

VATN: STJÓRNARSKRÁRVARINN RÉTTUR!

Stjórn BSRB, hefur sent Stjórnarskrárnefnd tillögu þess efnis að aðgangur að drykkjarvatni skuli teljast til mannréttinda og að eignarhald á vatni skuli jafnan vera samfélagslegt . Þetta verði bundið í stjórnarskrá lýðveldisins...ef þessi krafa næði fram að ganga værum við að feta okkur inn á sömu braut og tvö ríki hafa þegar gert, Holland og Uruguay. Hér að neðan er að finna ...

29. Apríl 2005

1. MAÍ SKIPTIR MÁLI


...Auðvitað á nákvæmlega hið sama við hér á landi og úti í hinum stóra heimi. Þegar fólk sýnir samstöðu fær það sínu framgengt. Óbilgjarnar ríkisstjórnir gerast þá blíðmálli og breyta hegðan sinni. Á Íslandi stefnir í mikið óefni fari fram sem horfir og er orðin lífsnauðsyn að koma vitinu fyrir stjórnvöld. Á meðan sumir telja eignir sínar í milljöðrum hafa aðrir vart í sig og á...Þetta gerist á sama tíma og ríkisstjórnin lætur þau boð út ganga að allir landsmenn bókstaflega baði sig í góðæri. Vel sóttir baráttufundir á degi verkalýðsins er krafa um breytta forgangsröð. Höfum það í huga. 

28. Apríl 2005

FRAMLAG TIL MANNRÉTTINDASKRIFSTOFU VERÐI ENDURSKOÐAÐ

...Eða hverju sætir að opinbert framlag til þessarar mikilvægu stofnunar, sem er andlit Íslands inn á við og út á við í mannréttindamálum, er skorið niður úr 8 milljónum í 2,2 milljónir? Skyldi það vera vegna þess að Mannréttindaskrifstofa hefur haft sitthvað að athuga við ýmis umdeild stjórnarfrumvörp, fjölmiðlafrumvarpið, útlendingafrumvarp og fleiri, á undanförnum misserum? Enginn hefur treyst sér til að segja að Mannréttindaskrifstofan hafi ekki verið fagleg og sanngjörn í umfjöllun sinni um fyrrgreind mál. Hún hefur hins vegar gerst sek um þann "glæp" að vera stjórnvöldum ekki undirgefin. Þess vegna er nú talað um ...

27. Apríl 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: MEIRA UM STÉTTASKIPTINGU

...Það þýðir að ég tek eftir mismunun stéttanna í samfélaginu á undan mismunun kynjanna, þar að auki finnst mér að þessi afstaða hjálpi mér heldur en hitt til að sjá misrétti kynjanna. Ég lít ekki svo á að það sé sprottið af því að karlar séu vondir við konur heldur afleiðing og fylgifiskur stéttaskiptingarinnar og misskiptingar auðsins. Ég er þess vegna gersamlega ósammála Páli Hannessyni um að allir femínistar hljóti að vera bandamenn vinstrisinna/jafnaðarmanna um að koma á betra þjóðfélagi. Þannig eru til hópar femínista sem jafnframt eru til hægri í stjórnmálum, frjálshyggjumenn. Þeirra áhugi á jafnrétti kynjanna felst ekki síst í því að konur komist að kjötkötlum valds og eigna til jafns við karlana,  en það er ekkert í viðhorfum þeirra sem bendir til ...

27. Apríl 2005

VARAÞINGMAÐUR FRAMSÓKNAR OPNAR FÝLUPOKANN OG STURTAR YFIR ÞJÓÐINA

...Er nema von að menn velti því fyrir sér hvort hugur fylgi máli hjá Framsóknarflokknum í því nauðsynjamáli að opinbera fjármál stjórnmálaflokkanna og ráðamanna til að sporna gegn spillingu, sem sannarlega hefur til að mynda grasserað í stórfelldri einkavæðingu undanfarinna ára. Í þeim efnum öllum hefur Framsóknarflokknum orðið einstaklega vel ágengt og vissulega hefur flokkurinn að stórum hluta haft “forgöngu um þá vinnu”, svo notuð séu digurbarkaleg orð varaþingmannsins hér að ofan, og stýrt henni af mikilli leikni...
Þjóðólfur

27. Apríl 2005

SAMTÖK UM BÆTTA VÍNMENNINGU EÐA UM HEIMDALLARPÓLITÍK?

...Þegar leið á umræðuna kom betur og betur í ljós að samtökin tala greinilega fyrst og fremst máli þeirra sem vilja afnema ÁTVR og koma vínsölu inn í almennar matvöruverslanir. ... Mér fyndist heiðarlegra að samtökin kenndu sig við þann málstað en ekki bætta vínmenningu. Fólk á að koma hreint fram og undir réttu flaggi.
Sunna Sara

26. Apríl 2005

FRAMSÓKN FARI ALLA LEIÐ en ekki WITH A LITTLE HELP ...

Þingflokkur Framsóknarflokksins ætlar að birta upplýsingar um tekjur og hagsmunatengsl þingmanna sinna. Þetta er lofsvert skref og gott, svo langt sem það nær. En því miður nær það ekki nógu langt... Þótt Framsókn sé að stíga jákvætt skref með því að gera grein fyrir fjárreiðum þingmanna sinna þá stendur krafan á Framsókn um að fara alla leið og opna bókhald flokksins upp á gátt...

26. Apríl 2005

SPRETTHARÐARI EN HRYGNA ,VÍÐSÝNNI EN ÖRN

...Jón þessi bregður upp ógleymanlegri lýsingu á eiginleikum Ingibjargar og birtast allir þeir miklu mannkostir á heimasíðu hennar, ingibjörgsolrun.is. ...Kannski - og vonandi - eru þessar athugasemdir mínar á einhverjum misskilningi byggðar; kannski skil ég heldur ekki hugtökin umræðustjórnmál og lýðræði. En ef svo skyldi nú vilja til að málflutningur minn hér að ofan sé amk. á einhverjum rökum reistur verður því naumast neitað að sporin hræða. Í stjórnmálum almennt hafa nefnilega dýrðardyndlar sjaldnast reynst vel. Oftast hafa þeir unnið gegn frjálsri hugsun og undantekningarlaust er afar takmarkað rúm fyrir lýðræði, og þá helst bara að nafninu til...
Þjóðólfur

24. Apríl 2005

Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: GRÆÐGIN MUN EKKI FÆRA OKKUR FRAM Á VEGINN

...Ef til vill varð þetta til þess að ég fór að velta fyrir mér hvað væru peningar og hvað lægi á bak við þá. Þetta er flókið fyrirbæri en ég held að Marx og félagar hafi opnað augu mín og margra annarra, um að peningar sem slíkir eru ávöxtun á vinnu og framleiðslu annarra. Glæsileg verksmiðja þar sem ekkert er fólkið er verðlaus eins og húsið þar sem enginn vill búa og engin er atvinnan. Það er bankanna og fjármálastofnananna að sjá til að sparnaður okkar ávaxtist þannig að við getum lifað sómasamlegu lífi þegar við eldumst. Aðal sparnaður almennings er í gegnum lífeyrissjóðina og er hann umtalsverður. Því miður er það svo að kapíalistunum, sem stjórna fjármálakerfum heimsins er ekki treystandi og heldur ekki á þeirra valdi að hafa þar áhrif á nema að litlu leyti. Ástæðurnar eru margar. Sumt er fyrirséð um annað ríkir ...

23. Apríl 2005

RÍKISSTJÓRNIN GERIR SÉR GLAÐAN DAG

Mynd: mbl.is
Það var glatt á hjalla í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu
á föstudagskvöldið segir í flennifrétt í Morgunblaðinu í dag. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafði þá setið að völdum á Íslandi í tíu ár upp á dag. Af því tilefni  bauð ríkisstjórnin sjálfri sér og öllum ráðherrum, sem gegnt hafa embætti á þessum tíma, ásamt mökum til viðhafnarkvöldverðar. Auðvitað er sjálfsagt að fólk geri sér öðru hvoru glaðan dag og stundum er það réttlætanlegt að hið opnbera efni til fagnaðar. Einhverra hluta vegna finnst mér þessi kvöldverður á kostnað skattborgarans ekki ganga upp. Ef til vill er hann þó táknrænn; dæmigerður fyrir þá sem ... Sjálfshól ráðherranna á sérstökum fréttamannafundi áður en þeir settust að veisluborði fékk ítarlega umfjöllun í fjölmiðlum og minnti á vel heppnaðar gróðursetningarferðir Daniels Araps Mois fyrrum forseta í Kenýu. Sá maður var ...

22. Apríl 2005

BSRB VARAR VIÐ ALDURSTENGINGU LÍFEYRISIÐGJALDA

Nánast án nokkurrar umræðu í verkalýðshreyfingunni virðast örfáir einstaklingar ætla að knýja í gegn grundvallarbreytingar á lífeyriskerfinu. Til stendur að tengja verðmæti iðgjalda aldri greiðandans þannig að iðgjöld sem greidd eru á unga aldri eru verðmætari en iðgjöld sem við greiðum þegar aldurinn færist yfir. Rökin eru þau að sjóðurinn hafi peningana lengur til ávöxtunar. En hvað þýðir þetta t.d. fyrir konur sem eru fjarri vinnumarkaði á fyrstu árum starfsævinnar vegna barneigna og hvað með langskólagengið fólk sem kemur seint inn á vinnumarkað?

21. Apríl 2005

GEÐHJÁLP / OKKAR MÁL

Nýlega birtist fylgirit með Morgunblaðinu undir sama heiti og fyrirsögnin hér að ofan. Það fór vel á því að birta þetta rit með Morgunblaðinu því að öllum öðrum fjölmiðlum ólöstuðum hefur Morgunblaðið sinnt þessum málaflokki betur og af mikilli staðfestu um langt árabil. Þar á heiðurinn án efa fyrst og fremst Styrmir Gunnarsson ritstjóri, en hann hefur verið einn ötulasti baráttumaður fyrir hagsmunum geðsjúkra hér á landi. Í viðtali sem birtist við Styrmi í þessu riti segir hann eftirfarandi um stefnu Morgunblaðsins: "Við höfum almennt lagt okkur fram um að breyta afstöðu fólks til þessara sjúkdóma, draga úr fordómum og stuðla að opnari umræðu." 
Þetta hefur Morgunblaðinu tekist og á lof skilið. Ekki ætla ég að rekja efni umrædds blaðs en þar kemur margt fróðlegt fram. Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, fylgir ritinu úr hlaði á sinn...

20. Apríl 2005

ÆTLAR RÍKISSTJÓRNIN AÐ VEITA UPPLÝSINGAR UM FJÁRMÁLATENGSL RÁÐHERRA?

...Í sjálfu sér ber að fagna þeirri yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar að fela skuli forsætisnefnd að fara í saumana á þessu máli. Ef þessi umræða, og reyndar sambærilegur þrýstingur í þessa veru árum saman, verður til að hreyfa málinu þá er það gott. Engu að síður velkist ég ekki í vafa um að halda verður uppi þrýstingi til þess að eitthvað raunverulega gerist í málinu. Við skulum vera minnug þess að Halldór Ásgrímsson sagði ekki alls fyrir löngu að sér væri það að meinalausu að birt yrði fundargerð utanríkismálanefndaar Alþingis sem hafði að geyma ummæli hans sem stjórnarandstöðunni þóttu ganga í berhögg við önnur ummæli hans og gjörðir á þessum tíma. Þessi ummæli voru aldrei birt. Sjálfstæðisflokkurinn gætti þess að lokað var á málið. Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn í þessu máli? Í ljósi þessa er eðlilegt að spyrja hvaða þýðingu yfirlýsing Halldórs Ásgrímssonar í dag komi til með að hafa? Það á einfaldlega eftir að...

19. Apríl 2005

UM KREDDUR Á KRATAVÆNGNUM

Einkavæðing velferðarþjónustunnar kemur ekki til greina segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir frambjóðandi til formennsku í Samfylkingunni. En hún bætir því við að allt komi til greina varðandi rekstrarformið...Hið sama er uppi á teningnum hjá Tony Blair og félögum í Nýja Verkamannaflokknum í Bretlandi. Þeir fundu upp hugtak sem heitir einkaframkvæmd. Þetta form hefur sömu eiginleika og einkavæðing og er einkavæðing, ef út í það er farið. Einkaframkvæmd gerir fjárfestum kleift að taka arð út úr þessari þjónustu eins og hverjum öðrum rekstri og reka hana á forsendum markaðslögmála...

19. Apríl 2005

"ÉG BARA BENDI Á SKÝRSLU RÍKISENDURSKOÐUNAR"

...Valgerður bankamálaráðherra átti ekki mörg svör ríkisstjórninni til málsbóta í sjónvarpsþættinum þótt ekki verði sagt að hart hafi verið að henni sótt af hálfu háttprúðra þáttastjórnenda. En eitt taldi hún þó vera ríkisstjórninni haldreipi og það var umrædd skýrsla Ríkisendurskoðunar sem út kom haustið 2003 að beiðni þingflokks VG. Þessi skýrsla var afskaplega rýr í roðinu og fyrir þá sem vilja vita var hún ganrýnd af hálfu þingflokks VG sem  taldi Ríkisendurskoðun ekki hafa risið undir hlutverki sínu að þessu sinni. Í umræðu um starfsskýrslu Ríkisendurskoðunar í þinginu í janúar á þessu ári sagði ég að nálgun stofnunarinnar gagnvart viðfangsefninu í umræddri skýrslu hefði verið þröng og einskorðast við þau markmið sem ríkisstjórnin hefði lagt til grundvallar en ekki tekið mið af gagnrýni sem fram hefði komið innan þings og utan á einkavæðinguna og framkvæmd hennar. Sjónarhornið hefði með öðrum orðum verið afar þröngt. Skýrslan er því ekki nýtileg sem grundvöllur til að byggja á gagnrýna umfjöllun um einkavæðingu ríkisbankanna eins og fjárlaganefnd Alþingis hyggst nú gera. Þá liggur í augum uppi að skýrsla Ríkisendurskoðunar er...

19. Apríl 2005

ÓTRÚLEGA MIKIL UMFJÖLLUN UM EINN MANN?

Ekki veit ég hvort viðræðuþátturinn við Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra í Ríkissjónvarpinu var hugsaður sem grín eða alvara af hennar hálfu. Valgerður var mætt á vettvang til að svara fyrir einkavæðingu ríkisstjórnarinnar. Hún sagði að það væri "ótrúlega mikið fjallað bara um einn þingmann" í sambandi við hagsmunatengsl einkavæðingarinnar. Ég tek undir með Valgerði að það er ótrúlega mikið fjallað um ...
Sunna Sara

17. Apríl 2005

FJÖLMIÐLAR SPYRJI ÖSSUR OG INGIBJÖRGU SÓLRÚNU

...Í Bretlandi hafa hin margrómuðu umræðustjórnmál aðallega verið í nösunum á þeim sem engar raunverulegar umræður vilja. Þannig hefur það gerst að markaðskreddurnar hafa verið lögfestar umræðulaust hjá hinum bresku umræðupólitíkusum! Víkjum þá aftur til Íslands og formannskosninganna í Samfylkingunni. Hvað þykir frambjóðendum um vinnubrögð bresku hægri kratanna? Væri ekki ráð að spyrja formannskandídata Samfylkingarinnar hreint út hvort þeim finnist yfir höfuð koma til greina að einkavæða hverfisskóla á grunnskólastigi, í stað þess að hjakka í því farinu hver sé að rægja hvern? Um aðra þætti velferðarþjónustunnar mætti einnig spyrja þau Össur og Ingibjörgu Sólrúnu, þar með talið...

16. Apríl 2005

ORÐ SKIPTA MÁLI – EKKI SÍST ÚR MUNNI FRÉTTAMANNA

...Í hádegisfréttum RÚV í dag var rætt um tvo áhrifamenn úr liði Bush Bandaríkjaforseta og afstöðu þeirra til Sameinuðu þjóðanna, annars vegar Johns Boltons nýútnefnds sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum og Condoleezzu Rice utanríkisráðherra. Okkur var sagt að John Bolton hefði gagnrýnt SÞ harðlega og Condoleezza Rice vildi umbætur hjá þessum sameiginlegu samtökum jarðarbúa. En nú fór ég að hugsa um orðin. Er rétt að segja að John Bolton hafi gagnrýnt Sameinuðu þjóðirnir, væri ekki nær að segja að hann hafi ...

15. Apríl 2005

BELTI OG AXLABÖND

Við í Snotru höfum verið  að velta því fyrir okkur hvort maður þurfi  að virkilega fara í Kvennó til að læra að girða sig. Samanber...Ég man ekki betur en þetta sé gamall frasi frá þér Ögmundur um beltið og axlaböndin þegar þú líktir verðtryggingu og breytilegum vöxtum við belti og axlabönd. Valgerður át þetta síðan upp og ekkert nema gott um það að segja að hún hrífist af frasanum. Hér í Snotru finnst okkur þó svoldið sérstakt hve Valgerður ráðherra virðist vera upptekin af því að fólk girði sig vel. Þegar ég var í bændaskólanum forðum daga og við buðum stelpunum í Kvennó og í Húsmæðraskólunum á 
Runki frá Snotru

15. Apríl 2005

BOÐBERI BUSH Í FALLUJAH: "FRAMTÍÐIN UNDIR YKKUR KOMIN "

...Ef heimsóknin átti að vera táknræn um sjálfsöryggi ráðamanna og uppbyggingu varð reyndin önnur. Aðstoðarutanríkisráðherrann steig ekki fæti á jörð í Fallujah, sagði blaðamaður, heldur fór beint úr herþyrlu í brynvagn sem æddi um götur borgarinnar, Main Street og Michigan Street og fleiri götur sem Bandaríkjamenn hafa endurskýrt. Alls staðar blöstu við húsarústir. Hermaðurinn sem hafði orð fyrir þeim sem fylgdu aðkomumönnum, utanríkisráðherranum og hans liði ásamt fréttamönnum, sagði að íbúarnir hefðu áður lifað í stöðugum ótta við hryðjuverkamenn. Mörg hús hafi vissulega verið eyðilögð, en "íbúarnir skildu að þetta þurfti að gerast." ...Þegar hér var komið sögu í lestri greinarinnar, rifjaðist upp fyrir mér bænaskjal sem borgaryfirvöld í Fallujah skrifuðu...

14. Apríl 2005

FRÉTTAMOLAR AF EUREC FUNDI

...Hvað gerir fólk við slíkar aðstæður? Sumir koðna niður, aðrir flýja land - frá Moldovu hefur ein milljón flust úr landi, nokkuð sem hlýtur að vera mikil blóðtaka fyrir þjóð sem telur 4,4  milljónir. Þriðji kosturinn er að berjast fyrir umbótum. Það er einmitt verkefni verkalýðshreyfingarinnar og á dagskrá EUREC fundarins var að leggja á ráðin um baráttu fyrir betra þjóðfélagi. Þótt aðstæður séu víða erfiðar fer því fjarri að menn hafi setið auðum höndum. Okkur var sagt frá fundum og seminörum þar sem upplýsingum var miðlað og reynt að efla samstöðuna. Það var t.d. frábært að heyra frá fundum í Serbíu þar sem ...

12. Apríl 2005

Kristján Hreinsson skrifar: VERÐTRYGGING LÁNA ER TÍMASKEKKJA

Einhver bankinn tilkynnti okkur um daginn að einn milljarður á viku væri sú upphæð sem flokkast þar á bæ undir hagnað. Auðvitað er eitthvað af þeim smámunum sótt til útlanda, en stór hluti er sóttur til okkar hér á skerinu í formi vaxta, verðtryggingar og þjónustugjalda af ýmsum toga. Ekki hafði ég neitt á móti því á sínum tíma að Landsbankinn færi úr eigu ríkisins, mér þótti hann að ...Og í dag sitjum við uppi með það sem þótti skyndilega réttlætanleg ráðstöfun, þegar þeir spenakálfar sem nú eru að verða ellihrumir höfðu blóðmjólkað kerfið; hin einkennilega verðtrygging lána var tekin upp – þetta fyrirbæri sem menn kölluðu einnig vísitölubindingu hér í eina tíð. En þetta varð til þess að snúa dæminu endanlega alþýðunni í óhag. Nú varð skyndilega hægt að lána öllum, ekki bara nokkrum útvöldum, því nú gerðist það að fólk borgaði alltaf ...
Kristján Hreinsson, skáld

12. Apríl 2005

RÍKISSTJÓRNIN Á MÓTI ATVINNULÝÐRÆÐI!

Í umræðum um Ríkisútvarpið á Alþingi sögðu fulltrúar ríkisstjórnarinnar að það tilheyrði ekki "nútímarekstri" að tryggja starfsmönnum aðgang að stjórn stofnana! Í kjarasamningum í byrjun níunda áratugar síðustu aldar var samið um að efla atvinnulýðræði í opinberum stofnunum. Því miður var ákvæðum þessara samninga sem BSRB gerði við Ragnar Arnalds þáverandi fjármálaráðherra, ekki alls staðar fylgt eftir. Það var þó gert í Ríkisútvarpinu...Nú standa þessir flokkar að lagabreytingu sem á að úthýsa fulltrúum starfsmanna úr stjórn Ríkisútvarpsins. Atvinnulýðræði er sagt gamaldags rugl. Nú er það valdstjórnin sem blífur! Þetta heldur stjórnarmeirihlutinn að sé nútímalegt þegar hann í reynd er að reyna að skrúfa okkur aftur til forstjóraveldis fortíðarinnar. Hversu langt aftur í tímann skyldu þau vilja halda? Það verður fróðlegt að ...

11. Apríl 2005

HOLDGERVINGUR STJÓRNARSTEFNUNNAR Í BÆTTUM LÍFSKJÖRUM OG STÓRBÆTTRI DREIFINGU LANDSINS GÆÐA

...En niðurstaðan er þessi: Verðmæti eignasafns Björgólfs Thors Björgólfssonar sem hrannast hefur upp á síðastliðnum 15 árum nemur 83 milljörðum íslenskra króna ef marka má úttekt hins virta ameríska tímarits, Forbes. Er þar væntanlega gengið út frá hreinni eign og hefur þá Björgólfur borið úr býtum að meðaltali röskar 15 milljónir króna á degi hverjum frá um 1990 og allt til ...En af hvaða erfiði hefur þessi einstaklingur þénað svona vel? Nú þekki ég ekki gjörla hvað hann hefur haft fyrir stafni frá 1990 en þó er mér kunnugt um að hann hefur komist yfir nokkur ríkisfyrirtæki, bæði hérlendis og erlendis, á umliðnum árum. Getur verið að útsölur undanfarinna ára og jafnvel hreinar gjafir á eignum almennings séu svona ábatasamar? Áfergja athafnaskálda landsins í kringum sýningarbás ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu þar sem Landssíma Íslands hefur nú verið stillt upp til “sölu” gefur vísbendingar þar um. Ekkert skal þó fullyrt um þessa tengingu að sinni en hitt er víst að ...
Þjóðólfur

10. Apríl 2005

BANDARÍKJASTJÓRN, AL QUAEDA OG KJARNORKUSPRENGJAN


Haft var eftir Mohamed ElBaradei, forsvarsmanni Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (International Atomic Energy Agency), í fréttum að tímaspursmál væri hvenær Al Quaeda hryðjuverkasamtökin kæmust yfir kjarnorkuvopn...Ekki veit ég hvaðan forstöðumaðurinn hefur þessar upplýsingar. Ef þetta hins vegar er rétt þá er það hrikaleg tilhugsun; engu síður skelfileg en vitneskjan um að núverandi Bandaríkjastjórn hefur yfirrráð yfir kjarnorkuvopnum...Menn þurfa ekki annað en fara upp í bandaríska sendiráðið við Laufásveginn í Reykjavík til að fá staðfestingu á því að Bandaríkjastjórn réttlætir enn þann dag í dag fjöldamorðin í Hiroshima og Nagasaki...Barátta Bandaríkjanna gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna verður ekki sannfærandi fyrr en ...

9. Apríl 2005

Páll H. Hannesson skrifar: ÞRÖNGT SJÓNARHORN

Helgi vinur minn Guðmundsson veltir því fyrir sér í grein á Ögmundi.is hvort íslenskt þjóðfélag sé kynskipt eða stéttskipt. Er á honum að skilja að þjóðfélagið sé ekki lengur álitið stéttskipt heldur sé það með röngu talið kynskipt. Og að þetta hörmungarástand sé helst “talsmönnum kvenna” að kenna. “Svo vel hefur talsmönnum kvenna tekist upp í að halda jafnréttisumræðunni vakandi að því er líkast að þjóðfélagið sé ekki lengur stéttskipt heldur kynskipt,” skrifar Helgi. Af þessu leiði rangar áherslur í baráttunni fyrir betri heimi auk þess sem karlar séu ýmist hafðir fyrir rangri sök eða að hlutur þeirra sé fyrir borð borinn. Afleiðingin sé sú að fólk sem tekur þátt í og stýrir umræðunni, líti fram hjá slæmum hlut láglaunafólks, þar sem fyrir má finna, konur, karla og útlendinga. Mér finnst þessi grein Helga vera allsérkennileg ...

7. Apríl 2005

FYRIRSPURN UM STARFSLOKASAMNING –GRÍN EÐA ALVARA?

Ég les í Fréttablaðinu í dag að fréttastjórinn sem aldrei kom til starfa á Ríkisútvarpinu muni fá starfslokasamning. Í blaðafréttinni segir m.a...Nú spyr ég þig Ögmundur sem formann BSRB, er þetta grín eða alvara? Er málið ekki frágengið? Myndu menn almennt fá starfslokasamning við slíkar aðstæður, það er að segja, þegar þeir, að eigin ósk, taka ekki við því starfi sem þeim hafði verið veitt? Þetta er almenn prinsipp spurning og þess vegna spyr ég þig ekki í eigin nafni heldur sem almennur félagsmaður í verkalýðssamtökum...
BSRB félagi

7. Apríl 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: KYNSKIPT EÐA STÉTTSKIPT?

Svo vel hefur talsmönnum kvenna tekist upp í að halda jafnréttisumræðunni vakandi að því er líkast að þjóðfélagið sé ekki lengur stéttskipt heldur kynskipt. Þannig urðu til að mynda talsmenn Odda, stærstu og virðulegustu prentsmiðju landsins, eins og barðir hundar, þegar femínistar urðu óánægðir með birtingu þeirra á gömlum málsháttum í dagbók sinni. Þeir báðust  afsökunar á að hafa ætlað að segja þjóðinni frá því hvernig menn hugsuðu í gamla daga og stofnuðu þegar til nýtísku bókabrennu... Á hinn bóginn lyktar þessi tillaga af því að einhverjum hluta verkalýðsforystunnar þyki ekki ómaksins vert að huga sérstaklega að lágstéttunum á baráttudegi verkalýðsins. Það er einhver smáborgaralegur millistéttarblær á þessari hugmynd – æ verum ekki að vasast í leiðindamálum á 1. maí, leikum okkur heldur! ...

7. Apríl 2005

GALIÐ RÚV FRUMVARP HLEÐUR UNDIR GUNNLAUG SÆVAR

Formaður Útvarpsráðs er Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson. Mér skilst að hann sé sjálfstæðismaður af frjálshyggjugerðinni. Slíkir menn eru almennt á móti ríkisstofnunum nema náttúrlega að þeir fái þær til að ráðskast með. Og Ríkisútvapið fól Sjálfstæðisflokkurinn Gunnlaugi Sævari í hendur. Þetta er sami stjórnmálaflokkur og segist vera á móti ríkisrekstri! Það er margt grínið.....Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar er áfram gert ráð fyrir því að ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi skipi í stjórn RÚV. Það sem meira er, ríkisstjórnarmeirihlutinn á að ákveða hvernig fréttastofan starfar, það er að segja...

5. Apríl 2005

ÞJÓFNAÐUR Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSI

...Þetta er fallegt hús með merka sögu. Ef til vill er það þess vegna sem menn með slæma samvisku leita þar athvarfs. Það gerði Einkavæðingarnefnd þegar hún boðaði sölu Símans í byrjun vikunnar. Gráðugir fjárfestar biðu utandyra. Þeir vita að þeirra menn hafa að venju unnið sitt verk vel: Hannað formúlu sem tryggir vildarvinunum bitann góða. En þjóðin, samkvæmt öllum skoðanakönnunum, er þessu hins vegar andvíg. Hvernig væri að taka undir með Jóni Bjarnasyni alþingismanni sem fer í farabroddi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um söluna? Með því móti væri hægt að...

4. Apríl 2005

BANKAR Í FASTEIGNABRASKI

Ég tók eftir því að þú varst að leita fyrirspurna um banka í fasteignabraski. Mér datt í hug að þú hefðir áhuga á að vita að Frjálsi fjárfestingabankinn er að leika sér að fólki í fasteignakaupum. Ég lenti í að kaupa íbúð af aðila sem Frjálsi fjárfesingabankinn fjármagnaði og sá aðili stóð ekki við sitt og tafðist afhending frá því í ... Einnig vakti það athygli mína að bankar mega lögum samkvæmt ekki stunda fasteignabrask en Frjálsi fjárfestingabankinn á hins vegar fasteignafélagið Hlíðar sem er að kaupa upp mikið af lóðum í Norðlingaholti...
Friðbjörn

30. Mars 2005

Guðmundur R. Jóhannsson skrifar: ÞEGAR MORGUNKORNINU OFBÝÐUR

...En þar sem ég sat við eldhúsborðið svelgdist mér á frjálsa bandaríska morgunkorninu mínu.  Í útvarpinu var verið að tala við mann sem heitir að mig minnir Guðjón Ólafur og er oft í fjölmiðlum, alltaf kynntur sem varaþingmaður Framsóknarflokksins en virðist samt aðaltalsmaður flokksins í öllum málum.  Verið var að ræða m.a. um einkavæðingu Símans.  Og það sem olli þessum viðsnúningi í efsta hluta meltingarfæranna var að maðurinn sagði að með einkavæðingunni erum við að færa þessi fyrirtæki til almennings.  Ha, hvað sagðurðu - varð mér að orði  - en fékk ekkert svar en mér misheyrðist áreiðanlega ekki...Eru þeir Björgólfsfeðgar almenningur, eru Baugsfeðgar fólkið í landinu, eru þeir Kaupþingsfélagar venjulegir bankastarfsmenn?  Nú myndi ég ...Og í þættinum sem ég nefndi áðan var líka hann Lúðvík alvöruþingmaður frá Samfylkingunni og sagði að hann gæti nú tekið undir margt það sem varaþingmaðurinn sagði, kratarnir eru alltaf samir við sig.  Fréttamennirnir líka ef út í það er farið, við verðum að...

30. Mars 2005

BLIKKANDI VARNAÐARLJÓS Í FJÁRMÁLAKERFI

Fréttir sem nú berast innan úr bankakerfinu hljóta að vekja ríkisstjórnina – og okkur öll -  til umhugsunar. Í morgun var sagt frá því í fréttum að yfirdráttarlán heimilanna hafi aukist um 1.500 milljónir króna í febrúar og væri þetta annar mánuðurinn í röð sem yfirdráttarlán heimilanna hækki...Á tímabilinu ágúst til desember á síðastliðnu ári drógust yfirdráttarlánin saman. Á því tímabili sáu margir sér hag í því að endurfjármagna yfirdráttarlán með hagstæðari íbúðarlánum til lengri tíma. Áður en þessi endurfjármögnun hófst námu yfirdráttarlánin 60,5 milljörðum króna. Nú stefnir í að þessu marki sé náð að nýju...

29. Mars 2005

RÚV, SINFÓNÍAN OG PÁSKARNIR


...En skyldi nú ekki eitthvað þurfa að greiða fyrir tónlist frá Sinfóníuhljómsveit Íslands í Ríkisútvarpinu þótt núverandi kostnaðarskuldbindingar RÚV verði numdar brott. Eða á að líta á Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hverja aðra sinfóníuhljómsveit sem fyrirfinnst í heiminum? Þetta væri í samræmi við hægri sinnaða hugmyndafræði markaðshyggjunnar: Allir jafnir á markaði. Á Íslandi hefur okkur hins vegar tekist að byggja upp mjög traustar menningarstofnanir á allt öðrum hugmyndagrunni: Með samvinnu...Ég er ekki viss um að fólk úr stjórnarherbúðunum sem er velviljað Ríkisútvarpinu – fólk sem alls ekki vill grafa undan RÚV - hafi hugsað þessi mál til enda. Ég get að sjálfsögðu ekki gert kröfu um að allir fallist á mínar skoaðanir. En vonandi fáum við...

28. Mars 2005

FALLINN MEÐ FJÓRA KOMMA NÚLL

Er orðin frekar uggandi yfir endurteknum dæmum um það hvernig hagsmunum eigenda fjölmiðlasamsteypu Baugs og fréttum er blandað saman. Dæmunum fer fjölgandi. Þegar Páll fréttastjóri Stöðvar 2 samdi við Baug um að flytja Bobby Fischer til Íslands í einkaþotunni sem eigendur 365 ljósvakamiðla hafa aðgang að brást hann áhorfendum frétta. Þegar hann svo stuðlaði að því að fréttamaður Stöðvar 2 leiddi Fischer inn í bíl á vegum fyrirtækisins þá brást hann sem fréttastjóri. Þegar hann svo svippaði sér upp í framsæti jeppans á teinóttum jakkafötunum þá varð öllum sem á horfðu ljóst að þarna fór leikstjóri sýningarinnar. Fréttastjórinn sem í krafti fjár eiganda fjölmiðlaveldisins gerði allt sem í hans valdi stóð til að...
Ólína

28. Mars 2005

MAÐUR EN EKKI HVALUR

Birtist í Morgunblaðinu 27.03.05
Nú kemur á daginn að stuðningshópur Bobbys Fischers ætlar ekki að láta staðar numið heldur skoða mál fleiri einstaklinga sem frelsa má úr ómannúðlegri prísund. Ungur maður af íslensku bergi brotinn, fórnarlamb fordóma og miðaldahugsunar í bandarísku dómskerfi, hefur verið nefndur í því sambandi.
Þannig gæti mál Fischers orðið fordæmi að tilraunum Íslendinga til að láta gott af sér leiða í mannréttindabaráttu. Það er hins vegar ein hætta í málinu...

28. Mars 2005

PÁSKABOÐSKAPUR FRÁ REYNIVÖLLUM

...Menn tengja gjarnan það besta í gjörðum okkar kristinni arfleifð. Það sækir mjög á hugann að þetta sé hreinlega rangt. Hvað með upplýsinguna, heimspeki almennt og hvað með heilbrigða skynsemi, er virkilega ekki eitthvað innbyggt í okkur öll sem má kalla því nafni? Mjög hrár bókstafsboðskapur sem berst úr kirkjunum – stundum útvarpað – finnst mér hreinlega óþægilegur, áreitinn án þess að vera vekjandi og uppbyggilegur. Iðulega hefði ég fremur kosið að heyra heimspekifyrirlestur eða gott ljóð. Séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós höfðaði hins vegar mjög sterkt til mín í útvarpsmessu á föstudaginn langa. Kannski vegna þess að predikun hans var í senn heimspeki og ljóð. Efinn fær líka að vera til í boðskap hans: ".. Raunar er efinn samofinn trúnni, því að engin trú er hugsanleg án efa – og skyldi nokkur efi vera til án trúar? Trú er ekki í því fólgin að leggja trúnað á hvaðeina sem sagt er og þaðan af síður að ...

25. Mars 2005

HLUTHAFA TILKYNNT UM ARÐ

Fyrir nokkru síðan færði Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mér að gjöf hlutabréf í Landsbankanum hf. Hlutabréfið var upp á 300 krónur og sagði Pétur að hér eftir gæti ég ekki talað um braskarana á hlutabréfamarkaði án þess að horfa í eigin barm, og minnast þess að ég væri sjálfur í þessum hópi. Handhafi hlutafjár í Landsbankanum hf hlyti að gæta hófs í yfirlýsingum sínum. Margir höfðu lúmskt gaman af þessu uppátæki Péturs H. Blöndals. Þó held ég að flestum finnist innst inni að ...

24. Mars 2005

ÞAÐ Á EKKI AÐ ÞAGGA NIÐUR Í FISCHER

Bobby Fischer segir að loka eigi herstöð Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli og reyndar líka sendiráði Kana. Eftir þessar yfirlýsingar var sagt að Bobby væri geðveikur. Ekkert veit ég um geðheilbrigði Bobbys Fischers. En ekki þykir mér þessar yfirlýsingar vera neitt annað en heilbrigðisvottur og svolítið hallærislegt að hlusta á stuðningsmenn hans, skelfingu lostna, reyna að þagga niður í honum. Hvað á maðurinn að segja, hnepptur í varðhald að kröfu Bandaríkjastjórnar fyrir að tefla á Balkanskaganum  í trássi við kröfur herveldisins sem var þá í tímabundnum ofbeldisaðgerðum þar. Síðan hefur þessi maður þurft að sæta ...
Haffi

23. Mars 2005

FRJÁLSHYGGJAN KANNIST VIÐ KRÓGANN SINN


Helga Lára Hauksdóttir, Hafsteinn Þór Hauksson, Sigurður Kári ásamt undirrituðum.

Ungir sjálfstæðismenn efndu til fundar í Valhöll hádeginu í gær um frumvarp Sigurðar Kára Kristjánssonar alþingismanns um að nema úr gildi heimild til að birta skattskrár opinberlega. Þetta hefur lengi verið baráttumál ungra sjálfstæðismanna og hef ég oft furðað mig á því af hve miklum ákafa málið er sótt. Á fundinum sannfærðist ég um að þeir líta á þetta sem  mannréttindabrot...Annars voru fundarmenn rökfastir og skemmtilegir og gerðu grein fyrir máli sínu á ítarlegri hátt en hér er fært til bókar. Aðkomumanni var vel tekið þrátt fyrir ...

22. Mars 2005

HERSETAN OG NIÐURLÆGINGIN

Ég sé í fréttum að fulltrúar Bandaríkjanna muni koma til landsins í apríl til að ræða við íslensk stjórnvöld um áframhaldandi hersetu á Íslandi. Íslensk stjórnvöld álykta að mikið sé í húfi að halda hersetunni í landinu, þar sem um sé að ræða atvinnusköpun á Suðurnesjum fyrir Íslendinga og telja jafnvel að það væri hagkvæmt að íslenskir skattgreiðendur greiði í það minnsta hluta fjárhagskostnaðar Bandaríkjanna við að halda hernum og skrani hans í landinu. Það er farið að ræða minna um hersetuna í samhengi við varnarmál, enda er flestum háðulegt öfugmæli. Nú skulu bandarískir skattgreiðendur greiða niður atvinulífið með áframhaldandi óþarfa hersetu ...
Helgi

22. Mars 2005

BANKARNIR VILJA LOKA AÐ SÉR

...Ástæða er til að spyrja hvort það sé virkilega svo að upplýsingar um þessi efni séu einkamál. Eins og hér hefur komið fram er ekki krafist nafngreindra upplýsinga heldur aðeins almenns eðlis og einvörðungu í því augnamiði að fá úr því skorið hvort farið sé að lögum í landinu. Í fréttum Ríkisútvarpsins fyrir fáeinum vikum kom fram að Fjármálaeftirlitið væri að skoða þessi mál. Nú verður gengið eftir því á Alþingi við bankamálaráðherra hvort viðskiptaráðuneytið hafi leitað upplýsinga hjá Fjármálaeftirlitinu um athuganir á þess vegum. ..

22. Mars 2005

ENN FRAMIÐ LÖGBROT Á ÖRYRKJUM OG LÍFEYRISÞEGUM

Birtist í Mbl. 21.03.05
...Ríkisstjórnin getur ekki bæði sleppt og haldið gagnvart lífeyrisþegum. Fyrst var rofið sambandið á milli lægstu kauptaxta og almannatrygginga þegar ljóst var að stefndi í verulegar hækkanir á lægstu launum. Eftir að skorið var á þetta samband skuldbundu stjórnvöld sig með lögum að taka skuli mið af almennri verðlags- og launaþróun í landinu þegar hækkanir á greiðslum almannatrygginga voru annars vegar. Undan þessu lágmarksskilyrði getur ríkisstjórnin ekki vikið sér...

20. Mars 2005

ÁLFÍKLAR Í RÍKISSTJÓRN

Helst held ég að auglýsingaráðgjafar Framsóknarflokksins hafi lamið á puttana á iðnaðar- og byggðamálaráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, eftir makalausa álræðu hennar á þingi Samtaka iðnaðarins í vikunni sem leið. Morgunblaðið gerði m.a. þessa ræðu að umræðuefni í leiðara helgarblaðsins og var bersýnilega ekki skemmt. Í fréttum RÚV í kvöld kom síðan...

19. Mars 2005

ALDRAÐIR Á RAUÐU LJÓSI

Birtist í Málefnum aldraðra 1.tlbl.14.árg. 2005
Íslendingar eiga afar erfitt með að sætta sig við langar biðraðir. Ef það hendir menn í umferðinni á leið í eða úr vinnu að þeir þurfi að bíða lengur en 20 til 30 sekúndur á götuljósi rís samstundis mikil alda mótmæla og er þess krafist að tafarlaust verði ráðist í að gera mislæg gatnamót eða einhverjar þær ráðstafanir sem duga til að tryggja umferð án nokkurra tafa og stoppa. Kemur mönnum þá lítið við þótt framkvæmdirnar kosti himinháar upphæðir, jafnvel milljarða króna. Menn mega ekki hugsa smátt er þá sagt, bið kostar peninga. Eflaust væri þetta allt góðra gjalda vert ef við hefðum úr ótakmörkuðum fjármunum að spila og þyrftum aldrei að horfa í peninginn. Þannig er því hins vegar ekki varið. Fjármunir í sameiginlegum almannasjóðum eru af skornum skammti og skiptir miklu máli hvernig þeim er forgangsraðað og hvernig með þá er farið.
Þetta kom mér í hug nýlega við...

18. Mars 2005

HVER ER BALDUR OG HVER KONNI?

...Fróðlegt væri að heyra fréttmenn spyrja Finn Ingólfsson út úr um fréttastjóramálið. Framsóknarmenn í Reykjavík hvísla um það lágt að hann hafi í fárra manna hópi látið að því liggja, áður en matsferli Markúsar Arnar Antonssonar um umsækjendur var yfirstaðið, hver fengi starfið. Sömu menn hvísla um að Finnur Ingólfsson gangi undir nafninu “ósýnilegi maðurinn”, að hann sé maðurinn á bak við aðförina að Siv Friðleifsdóttur og kominn í þá sterku stöðu að vera með lyklavöldin að margslungnum leyndardómum Framsóknarflokksins. Hver er nú...
Ólína

18. Mars 2005

Baldur Andrésson skrifar: FÓLKIÐ OG FRIÐARSTEFNAN. TVEGGJA ÁRA BÖL Í ÍRAK.

...Ekkert lát má verða á alþjóðlegum andmælum við helstefnu bandaríska heimsveldisins og fautalegri eiginhagsmunagæslu þess. Bandarískum almenningi er nóg boðið þrátt fyrir hatramman stríðs- og þjóðrembuáróður.Ekki þarf að efast um almenna andstöðu
Evrópumanna og óttablandna andstöðu fólks um víða veröld. Gerræðistilburðir Bush-klíkunnar á veraldarvísu hafa sannarlega á sér fasískt yfirbragð, sem líklegt er að móti þróun veraldarmála til hins verra ef ekki verður fast á móti staðið. Sú andstaða mun mótast ígrasrótinni um víða veröld því valdkerfum heimsins er ekki treystandi. Enn á ný verður venjulegt fólk að þekkja vitjunartíma sinn...

18. Mars 2005

ERU ALLIR SJÁLFSTÆÐISMENN Á MÓTI RÍKISREKSTRI?

...Í Útvarpsráði sitja nú af hálfu Sjálfstæðisflokksins tveir harðir frjálshyggjumenn þeir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson og Andri Óttarsson. Sá fyrrnefndi er sjálfur á kafi í fjárferstingabraski og gefur lítið fyrir opinberan rekstur nema að sjálfsögðu þegar það þjónar persónulegum hagsmunum hans. Andri er einnig á hægri kantinum og skrifar ákaft gegn ríkisrekstri, þar með talið Ríkisútvarpinu, m.a. á vefritinu deiglan.com þar sem hann er í ritstjórn. Eftrifarandi má lesa í grein sem birtist sem ritstjórnarpistill og því á hans ábyrgð á deiglunni.com. Greinin er prýðileg og málefnaleg fyrir hans hatt. Það sem ég hins vegar gagnrýni er að Sjálfstæðisflokkurinn komi til áhrifa í Ríkisútvarpinu mönnum sem vilja stofnunina feiga. Sú var tíðin að Sjálfstæðisflokkurinn var breiður flokkur sem...

16. Mars 2005

VINIR ÍSLANDS?

...Hvað segir þetta okkur um Bandaríkjastjórn, að gera mann með þessi viðhorf að æðsta fulltrúa sínum hjá Sameinuðu þjóðunum? Er þetta einn af vinum okkar – einn þeirra sem okkur ber að sýna hollustu – svo vísað sé í yfirlýsingar Halldórs Ásgrímssonar, Davíðs Oddssonar og leiðarahöfunda Morgunblaðsins? Öllum þessum aðilum er gjarnt að tala um mikilvægi þess að við fylgjum "vinum okkar" að málum. Eru þeir menn sem hér hafa verið nefndir dæmi um slíka menn...?

15. Mars 2005

Kristján Hreinsson skrifar: TILVISTARKREPPA OG TVÍSKINNUNGUR

Eftir að hafa hlýtt á pistil í útvarpinu, þar sem Alfreð Þorsteinsson hélt því fram að R-listasamstarfið yrði að lifa, ef menn ætluðu ekki að hleypa sjálfstæðismönnum að kjötkötlunum, þá fór ég að velta fyrir mér þeirri skelfilegu ógnun sem okkur er sagt að felist í því að missa tökin á stjórn Reykjavíkurborgar... Forysta VG hefur einfaldlega ekki þorað að segja mikið um Kárahnjúka, vegna þess að menn óttast að fá ekki að vera með í stjórnarsamstarfi ef þeir gagnrýna um of það fúlegg sem ráðamenn kalla fjöregg þjóðarinnar í dag. Og mótmæli VG í borgarstjórn voru svo þögul þegar ábyrgðir til handa Landsvirkjun voru samþykktar hér um árið, að það mátti heyra ...

15. Mars 2005

EINFÖLD LEIÐ TIL AÐ LAGA RÚV

Röksemd Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, fyrir að breyta Ríkisútvarpinu í markaðsstofnun/SF er að innihaldi til eftirfarandi: Þá losnar stofnunin við afskipti stjórnmálamanna; fólk eins og mig, það er að segja ráðherrann sjálfan. Ef þetta er vandamálið kann ég eitt ráð við því. Það er að ...

14. Mars 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: ÚTI Á TÚNI

...Markús Örn hefur nú tíundað helstu rökin sem gerðu starfsmenn Útvarpsins vanhæfa í samanburði við sölumann Marels. Þeir eru um fimmtugt og þar með of gamlir! Mikilli starfsreynslu  fylgir vissulega sá augljósi galli að menn eldast en ekki er víst að allir skilji það sjónarmið stjórnarflokkanna og Markúsar Arnar að aldurinn sé miklu verri en sú reynsla og þekking sem hann hefur í för með sér. Að meira vit sé í að ráða ungan mann úr allt annarri átt þar sem reynsla af starfinu sem hann á að sinna er víðsfjarri en unglingssvipurinn augljós er vert frekari umhugsunar. Við þurfum að ná til ungs fólks sagði útvarpsstjórinn í  Kastljósþætti. Þetta hlýtur að þýða að nýja fréttastjóranum sé ...

14. Mars 2005

FRJÁLSHYGGJUMENN TIL HÖFUÐS RÚV OG "MEININGARMUNUR" MARKÚSAR

...Sjálfstæðisflokkurinn setur yfirleitt til valda og áhrifa menn í ríkisstofnunum sem hafa það yfirlýsta markmið að eyðileggja ríkisrekstur. Það er aumt hlutskipti frjálshyggjumanna, sem stæra sig af andstöðu við ríkisrekstur og almannastofnanir, að hafa ekki meiri sjálfsvirðingu en svo að taka að sér stjórn og umsjá ríkisfyrirtækja þegar þeir sjá sér persónulegan hag í því. Nema þeir telji það vera sérstaka köllun að láta planta sér innanbúðar til að valda tjóni og usla og grafa þannig undan þeim ríkisstofnunum sem þeim er treyst fyrir. Er það ef til vill skýringin á framferði formanns útvarpsráðs, frjálshyggjumannsins Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar í þessu og öðrum ámóta málum sem upp hafa komið? Hefur hann sett sér það takmark að eyðileggja RÚV? Hann hefur alla vega gefið menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins...

13. Mars 2005

ER HÆGT AÐ VERA VANHÆFARI?

Ótrúleg frétt var að berast: “Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, hefur sagt sig úr stjórnum Almenna lífeyrissjóðsins, Bakkavarar og Sindra hf. Brynjólfur situr að auki í stjórnum fleiri fyrirtækja. Bakkavör og fleiri fyrirtæki, svo sem KB-banki, eiga hlut í Meiði, fjárfestingafélagi sem hefur áhuga á að kaupa Símann..."...Það er sérstaklega tekið fram að hann ætli ekki að segja sig úr öllum fyrirtækjum sem hann situr í. það þýðir væntanlega  að þau ætla ekki að kaupa Símann, það veit hann allavega. Maður sem situr í stjórn fyrirtækja hlýtur að eiga umtalsvert í viðkomandi fyrirtækjum eða vera fulltrúi klíku. Hvort Brynjólfur er í stjórn eða...
Rúnar Sveinbjörnsson

12. Mars 2005

VERÐUR LALLI NÆSTI LÖGREGLUSTJÓRI Í REYKJAVÍK?

Í tengslum við sérdeilis ósvífna valdníðslu við val og ráðningu fréttastjóra á fréttastofu RÚV laust því niður í kollinn á mér að ráðning Auðuns Georgs Ólafssonar væri svona álíka ráðstöfun og að dómsmálaráðherra mundi – að undangengnu vandlegu forvali milli hinna hæfustu manna - skipa Lalla Johns í embætti lögreglustjórans í Reykjavík. En við nánari umhugsun komst ég að sjálfsögðu að þeirri niðurstöðu að þarna væri ólíku saman að jafna. Lalli, einn þekktasti og jafnframt ...
Þjóðólfur

11. Mars 2005

FRÉTT SEM EKKI MÁ GLEYMAST

...Ég hef sent fyrirspurn til forsætisráðherra Íslands sem væntanlega verður svarað í næsta fyrirspurnartíma á Alþingi um hvort íslenska ríkisstjórnin muni fara að dæmi Dana. Fróðlegt verður að heyra svar Halldórs Ásgrímssonar. Á Íslandi gætu þessi hagsmunatengsl skipt miklu máli í ljósi þess hve iðin íslenska ríkisstjórnin er að selja verðmætar þjóðareignir í hendur fyrirtækjum og einstaklingum. Í því spili hefur margur maðurinn ...

11. Mars 2005

ÞEGAR HVÍN Í ROKKUNUM

Ég hlustaði á þig á Talstöðinni í gær Ögmundur og er sammála þér að fráleitt er fyrir Framsóknarflokkinn að reyna að hvítþvo sig af ráðingarmálinu í RÚV þótt það kunni að vera rétt að sá nýráðni sé ekki flokksbundinn framsóknarmaður og að ákvörðun hafi ekki verið tekin á þingflokksfundi Framsóknar. Auðvitað eru þarna spunamenn flokksins að ..
.Haffi

10. Mars 2005

BROTAMENN KENNA KERFINU UM

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, kom fram í sjónvarpsfréttum og reyndi að sefa menn vegna reiði yfir hegðan meirihluta útvarpsráðs við ráðningu fréttastjóra útvarps. Það er að koma frumvarp sem boðar breytta stjórnsýslu í RÚV, segir ráðherrann. Og undir þetta sjónarmið taka margir, og segja að pólitískt kjörnir útvarpsráðsmenn eigi að heyra sögunni til...Hin nánu tengsl Ríkisútvarpsins við Alþingi eru einmitt þess valdandi að spilling og misbeiting valds er í fyrsta lagi öllum ljós og í öðru lagi veldur fyrirkomulagið því að enginn velkist í vafa um að öllum koma málefni stofnunarinnar við. Þegar eitthvað bjátar á er málið umsvifalaust tekið til umræðu á opinberum vettvangi. Viljum við breyta þessu? Viljum við Stöðvar 2 fyrirkomulagið þar sem tiltölulega nýráðinn fréttastjóri, Sigríður Árnadóttir, var rekinn skýringarlaust enda þótt hún væri sögð hafa staðið sig afbragðs vel í starfi. Grunur leikur á að mat eigenda væri að hún yrði þeim ekki leiðitöm. Þess vegna burt með hana. Vilja menn slíkt fyrirkomulag...

8. Mars 2005

HAGSMUNATENGSLIN Á NETIÐ STRAX!

Danska ríkisstjórnin gerði kjósendum sínum grein fyrir því í dag í hvaða fyrirtækjum ráðherrarnir eiga. Þetta er gert til að almenningur megi sjá hvar hagsmunir ráðherranna eru. Forsætisráðherrann í Danmörku vill að ráðherrarnir geri hreint fyrir sínum dyrum gagnvart kjósendum. Í flóknu þjóðfélagi þar sem viðskiptahagsmunir einstaklinga geta hæglega tengst pólitísku valdi er þetta nauðsynlegt. Anders Fogh Sörensen hefur einfaldlega sett listann yfir eignir ráðherranna í fyrirtækjum á heimasíðu forsætisráðuneytisins. Slóðin er...
Stefán

6. Mars 2005

ALLIR SENDIBOÐAR HIMNARÍKIS Á FJÁRLÖGUM?

Erindi á fundi SARK – Samtökum um aðskilnað ríkis og kirkju 05.03.05.
Ég var beðinn um að svara því á þessum fundi hvaða skýringar ég teldi vera á því að það virtist pólitískt viðkvæmt að ræða spurninguna um aðskilnað ríkis og kirkju.
Svar mitt er á þá lund að viðfangsefnið er nokkuð flókið og að ýmsu að hyggja þegar framtíðarstefna í afstöðu hins opinbera til trúmála almennt er mótuð. Málið er tilfinningaþrungið og af þeim sökum viðkvæmt – líka pólitískt. Ég sá í orðsendingu þar sem þessi fundur er auglýstur að einn málshefjandinn um þetta fundarefni væri...

5. Mars 2005

SPILAFÍKN

Ögmundur við höfum rætt um félaga okkar og vini sem spilafíknin hefur tekið af öll völd. Einstaklinar misst aleigu sína. Yfirleitt er þetta vel gefið fólk, fíknin fer ekki í manngreinarálit fremur en alkahólsimi. Dapurlegast er þó að ...Geta eftirfarandi tillögur hreyft við málinu? ...
Rúnar Sveinbjörnsson  

4. Mars 2005

VERÐA ÞINGKOSNINGAR Í VOR?

Ýmsar leiðir má fara við að túlka ummæli Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi í gær. Í umræðu um Ráðherranefnd Norðurlandaráðs hóf hún, flestum að óvörum ( en að viðstöddum iðnaðarráðherra Valgerði Sverrisdóttur sem sat gleiðbrosandi í salnum), mikinn lestur um Davíð Oddsson, forsætisráðherra og meiningar hans um Evrópusambandið. Davíð hafði...

4. Mars 2005

Páll H. Hannesson skrifar: FRAMKVÆMDASTJÓRN ESB VIÐURKENNIR VILLU SÍNS VEGAR

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú staðfest fregnir þess efnis að hún telji hina umdeildu þjónustutilskipun vera „pólitískt og tæknilega óframkvæmanlega“. Frá þessu var greint á vef BSRB í gær (3.marz 2005). Sú frétt var samkvæmt heimildum Financial Times af fundi framkvæmdastjórnarinnar kvöldið áður. Nú hefur framkvæmdastjóri Innri markaðsdeildar ESB, Charlie McCreevy, (Internal Market Commissioner)  opinberlega tekið afstöðu gegn þjónustutilskipuninni í óbreyttu formi og tilkynnt að framkvæmdastjórnin muni gera alvarlegar umbætur á tilskipuninni.

4. Mars 2005

STOFNANAHYGGJA HJÁ FRAMSÓKN

Það er greinilegt að í forystu Framsóknarflokksins er nú vaxandi áhugi á að Íslendingar haldi inn í í Evrópusambadið. Um þetta fóru fram umræður á nýafstöðnu þingi flokksins. En hvað er að gerast á vettvangi Evrópusambandsins? Ég nefni þjónustutilskipunina sérstaklega sem dæmi um ákvörðun ES sem kæmi til með að hafa bein áhrif á okkur ef hún yrði samþykkt. Ekki múkk um þetta hjá Framsókn. Enginn áhugi á innihaldi, aðeins umbúðum, bara hrá...
Hafsteinn Orrason

1. Mars 2005

OF FLÓKIÐ FYRIR ÞJÓÐÓLF

...þá finnst mér rétt að svara þér fáeinum orðum og játa um leið að þú hefðir vel mátt vera miklu fyndnari á minn kostnað. Ég hefði haft gaman af því, en þar sem „framlag” þitt til þarflegs samtals um RÚV bendir til þess að þú sért enn hræddari við stærðfræði en jafnvel ég, þá voga ég samt að spyrja þig: hvernig vilt þú tryggja RÚV nauðsynlegar tekjur á annan hátt en að reikna út skjástærðir og annað þess háttar (og hafa þar með her af gluggagæjum til að mæla)? Ég get komið með lagfæringu á þínu frumlega innleggi og hún er svona...
hágé.

28. Febrúar 2005

FRAMSÓKNARFÓLK Í FYRIRRÚMI

 
Um helgina fékk ég lesendabréf sem ég held að ekki sé hægt að horfa framhjá. Stefán vísar í "þá miklu umræðu sem oft sprettur upp á hinum Norðurlöndunum þegar uppvíst verður að stjórnmálamenn þar eru nátengdir fyrirtækjum. Þegar í ljós kemur að þeir eiga í fyrirtækjum sem til dæmis eru í viðskiptum við ríki eða sveitarfélög eða tengjast stjórnmálalífinu eða öðrum hætti. Ég undrast vegna þess að hér hafa fjölmiðlar ekki gert mikið úr svona tengslum." Síðan nefnir hann dæmi frá Norðurlöndunum máli sínu til stuðunigs og spyr mig hvort mér þætti"eðlilegt að fjölmiðlar beindu sjónum sínum að tengslum stjórnmálamanna hér við fyrirtækin í landinu, eða að eign stjórnmálamanna í fyrirtækjum." Í svari mínu tók ég undir með Stefáni að bæði Alþingi og fjölmiðlar hafi vanrækt skyldur sínar í þessum efnum. Ég benti jafnframt á að það væri lykilatriði að...

28. Febrúar 2005

Helgi Guðmundsson skrifar: FRJÁLST FLÆÐI FÁTÆKTARINNAR

... Meðal annars hafa fréttir borist af því að kona nokkur frá Litháen reki umfangsmikla „þjónustu” þar sem hún „miðlar” verkamönnum frá Eystrasaltslöndunum til íslenskra verktakafyrirtækja. Og undir hvaða formerkjum? Jú, þeim að samkvæmt EES samningi um frjálst flæði vöru, vinnuafls, fjármagns og þjónustu sé þetta bæði sjálfsagt og eðlilegt, enda innri markaður Evrópu öllum opinn. Í þessu skjóli hafa kaupahéðnar tekið sér það sérkennilega hlutverk að útdeila fátækt fátækustu landanna yfir til hinna betur settu. Öll íslensk fyrirtæki, sem vilja ...Um  þessar mundir er til að mynda mikið talað um hátt verð á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, allar nýbyggingar seljast eins og heitar lummur og verðið rýkur upp sem aldrei fyrr. Jafnframt er upplýst að aldrei hafi fleiri erlendir verkamenn verið í byggingavinnu á Suð-Vesturhorninu. Og ef það væri ekki dálítið eins og út úr hagfræðilegri kú lægi beinast við að álykta...

27. Febrúar 2005

RIDDARAR HAGSMUNAGÆSLUNNAR

Þakka svar. Ég er sammála þér um að fjölmiðlar hafi vanrækt skyldu sína vegna hlutverksins sem þeir þykjast stundum hafa og kallast að veita stjórnmálamönnum og fyrirtækjum aðhald. Innantóm orð á Íslandi. Það er rétt hjá þér líka að Morgunblaðið hefur haft uppi mesta viðleitni til að kortleggja atvinnulífið, en ritstjórn blaðsins er svo pólitísk að henni dettur ekki í hug að fjalla um það í leiðurum sem á þessu sviði er sett faglega fram á síðum blaðsins. Ég varð mér úti um samantekt blaðsins frá 5. febrúar 2004 um viðskiptablokkirnar í landinu. Þetta er góð úttekt og forvitnileg og hefði átt að kalla á miklar umræður í samfélaginu og á hinu pólitíska svið þar sem þú ert Ögmundur, en svo varð ekki. Þarna var fjallað um kaup S-hópsins á 45,8% hlut í Búnaðarbankanum. Stjórnmálamenn komu að því máli ofan, undir, til hliðar og aftan við Þarna er líka mikið fjallað um tryggingafélagið VÍS sem er stjórnað af hægri hönd forsætisráðherra. Þarna er kominn fyrirliði S-flokksins Finnur Ingólfsson fyrrverandi iðnaðar-og viðskiptaráðherra. Ég hef ekki hugmynd um Ögmundur hvort bróðir Halldórs Ásgrímssonar er ennþá í stjórn VÍS (eins og hann var þegar Morgunblaðið birti úttekt sína í febrúar í fyrra) sem fékk að kaupa Búnaðarbankann með ...
Stefán

26. Febrúar 2005

SPILLING Í SYSTURFLOKKNUM

Ég hef stundum undrast þá miklu umræðu sem oft sprettur upp á hinum Norðurlöndunum þegar uppvíst verður að stjórnmálamenn þar eru nátengdir fyrirtækjum. Þegar í ljós kemur að þeir eiga í fyrirtækjum sem til dæmis eru í viðskiptum við ríki eða sveitarfélög eða tengjast stjórnmálalífinu eða öðrum hætti. Ég undrast vegna þess að hér hafa fjölmiðlar ekki gert mikið úr svona tengslum. Nýjustu dæmin um þetta eru að Sören Gade, varnarmálaráðherra, er einn af stórum hluthöfum í rússnesku svínabúi, og að eiginmaður þróunarmálaráðherrans...Þætti þér eðlilegt að fjölmiðlar beindu sjónum sínum að tengslum stjórnmálamanna hér við fyrirtækin í landinu, eða að eign stjórnmálamanna í fyrirtækjum...?
Stefán

26. Febrúar 2005

ÁHRIFAMIKIL ORÐ ÚR HAFNARFJARÐARKIRKJU

Það kemur fyrir að prestar hreyfa við okkur í predikunum sínum. Það gerði séra Gunnþór Þ. Ingson sóknarprestur í Hafnarfirði fyrsta sunnudag í febrúar en þá flutti hann áhrifamikla útvarpsmessu. Viðfangsefni séra Gunnþórs voru stefnur og straumar sem nú leika bæði um íslenskt samfélag og alþjóðasamfélagið í heild sinni. Hann hvatti okkur til að sýna árvekni í umhverfismálum, þar þyrftum við að beita okkur á alþjóðavettvangi, sömuleiðis í mannréttindamálum...

26. Febrúar 2005

KALLAÐ EFTIR FRUMKVÆÐI NORÐURLANDARÁÐS

Birtist í Morgunblaðinu 25.02.05. og í vikunni á Norðurlöndunum öllum í nafni NTR , sbr. að neðan.
...Hér er þörf fyrir Norðurlandaráð sem sameiningarafl og leiðandi aðila í því starfi að styrkja og þróa áfram norrænt kerfi með velferð fyrir alla í fyrirrúmi og öfluga verkalýðshreyfingu. Það er jarðvegur fyrir jákvæða þróun á Norðurlöndunum. Við vitum að viðhorf almennings til norræna velferðarkerfisins er jákvætt. Stjórnmálamennirnir hafa líka umboð til að bæta og þróa kerfið áfram.... 

26. Febrúar 2005

ER PUNGUR Á VALGERÐI?

Skjár einn var tekinn í bakaríið á dögunum fyrir að sjónvarpa enskum knattspyrnuleikjum með enskum þulum en ekki íslenskum. Fróðlegt verður að sjá hvað gerist á sjónvarpsstöðinni Sýn í dag þar sem keppni framsóknarmanna í hrútspungakasti verður sýnd í beinni útsendingu. Spurningin sem brennur á vörum þeirra sem...
Þjóðólfur

25. Febrúar 2005

GATS KEMUR ÖLLUM VIÐ


Ítarleg þingsályktunartillaga um GATS samningana var til umræðu á Alþingi í vikunni og er nú komin til umfjöllunar í utanríkismálanefnd þingsins. Hættan er sú að þar dagi málið uppi eins og gerðist á síðasta ári. Andvaraleysi Alþingis í þessu máli er mjög hættulegt því áður en við vitum af erum við flækt í net skuldbindinga sem þröngva okkur til að gera grundvallabreytingar á samfélaginu. Ástæðan fyrir því að þessar viðræður fara leynt og er haldið eins leynilegum og kostur er, er án efa sú að ...

24. Febrúar 2005

AF HVERJU BORÐA FORYSTUMENN FRAMSÓKNAR TINDABIKKJU?

Spakur maður sagði forðum að maðurinn lifði ekki á orðum sínum einum saman þótt vissulega þyrfti hann stundum að borða þau. Þetta á einkar vel við forystumenn Framsóknarflokksins þessa dagana og reyndar gott betur. Þeir hafa ekki við að éta ofan í sig alls kyns yfirlýsingar út og suður – vambirnar eru bókstaflega útkýldar. Nýjasta dæmið hér um er Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og snýst um nokkurra daga gamla yfirlýsingu hennar um einkavæðingu Landsvirkjunar. Hún kannast varla við orð sín lengur og reynir án afláts að éta ofan í sig einkavæðingar-óþverrann. Þessi viðleitni Valgerðar væri auðvitað afar virðingarverð ef hún héldi...
Þjóðólfur  

24. Febrúar 2005

FJÖLMENNINGIN OG SVÍNAPYSLAN

Ég vil þakka fyrir mjög umhugsunarverða umfjöllun um sambúð/aðskilnað ríkis og kirkju hér á heimasíðu þinni í kjölfar ráðstefnu VG um þetta efni um síðustu helgi. Reyndar fannst mér vangavelturnar um fjölmenningarsamfélagið mest spennandi. Sannast sagna er ég nokkuð sammála þeim Hönnu Ragnarsdóttur og Kristínu Dýrfjörð um þetta efni; Hönnu að því leyti að hún vill ...
Hafsteinn Orrason

23. Febrúar 2005

Baldur Andrésson: BLÓMARÆKT Í BRUSSEL

Best er að rækta blóm í brjóstum sem finna til. Í Brussel voru friðarblóm ræktuð á NATO-samkomu síðustu helgi í brjóstum valdsmanna. Reynt var að tengja löskuð hjörtu á ný og finna samhljóm í herlúðrum. Bush mætti og reyndi að stjórna kór sínum til söngs. Sumir  kórfélaga voru kvefaðir. Aðrir misstu athyglina þegar þeir hugleiddu milljónir andmælaradda við kórlaginu. Samsöngurinn varð ósamstilltur. Loft var enn lævi blandað á góðra vina fundi. Fréttaþjónar hafa upplýst okkur um mikilvægi þess að ...

23. Febrúar 2005

VIÐ HVAÐ Á AÐ MIÐA AFNOTAGJÖLDIN?

Ég vil þakka Helga Guðmundssyni fyrir hugleiðingar hans um afnotagjald ríkisútvarpsins og framtíðarskipan þar á. Báðir viljum við öflugt ríkisútvarp og er það vel. Helgi gefur því á hinn bóginn undir fótinn að afsala öllum auglýsingum og þar með tekjum af þeim til einkastöðva. Slíku er ég alfarið á móti. Þá telur hann ráð að tengja útvarpsgjöldin við gjöld af fasteignum og veltir upp ýmsum möguleikum í því sambandi. Ekki er ég fráhverfur því að afnotagjaldið taki mið af rúmmetrafjölda húsnæðis, en það er einmitt einn valkosturinn sem Helgi sér í stöðunni. En ef ...
Þjóðólfur 

23. Febrúar 2005

TÖKUM VALGERÐI SVERRISDÓTTUR Á ORÐINU– HLUSTUM Á HANA!

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra  kvartaði yfir því á Alþingi í dag að út úr orðum sínum væri snúið og að erfitt væri að tala til fólks sem "heyrir ekki það sem maður segir". Tilefnið var það að lánshæfismat Landsvirkjunar tók dýfu eftir þá yfirlýsingu Valgerðar að til stæði að einkavæða fyrirtækið á komandi árum. Valgerður sagði þetta alranga útleggingu á sínum orðum...Valgerður, í einlægni spurt, viltu raunverulega að við hlustum eftir því sem þú segir? Ekki bara á það sem þú segir í dag heldur líka á það sem þú sagðir í gær og í fyrradag? Vill ráðherrann líka að við leggjumst í samanburðarrannsóknir? Við skulum reyna, en það kallar á sterkt taugakerfi... 

22. Febrúar 2005

MUN BJÖRN BJARNASON REYNA VIÐ NÝTT HEIMSMET?

Það er víðar en á Íslandi að olíufélög hafi samráð sín í milli um verðlagningu. Í dag greinir Aftonbladet í Svíþjóð frá því að "Markaðsdómstóllinn" hafi dæmt nokkur olíufélög í samtals 112 milljón króna sekt fyrir að fara á bak við viðskiptavini sína með samráði. Þessa upphæð má margfalda rúmlega tífalt til þess að fá samanburð við íslensku krónuna. Þetta samráð fólst m.a. í því að sammælast um afsláttarkjör sem neytendur töldu sig vera að fá. Þetta samráð hefur staðið síðan 1999. Það sem mér liggur forvitni á að vita er hvernig Björn Bjarnason dómsmálaráðherra komi til með að ...

21. Febrúar 2005

SAMBAND/AÐSKILNAÐUR RÍKIS OG KIRKJU TIL UMRÆÐU HJÁ VG

...Gæti verið að það væri umburðarlyndið og velvildin sem skiptir máli, ekki kerfið? Í þessa veru mælti heimspekingurinn þingeyski Sigurjón Friðjónsson á svo áhrifaríkan hátt að aldrei fer mér úr huga. Sigurjón var uppi á árunum 1867-1950. Eftir hann liggur meðal annars stórmerkilegt rit sem ber heitið Skriftamál einsetumannsins. Auk þess að vera heimspekilega þenkjandi, var Sigurjón greinilega trúhneigður en lítið gefinn fyrir hina veraldlegu umgjörð trúarinnar. Velviljað hugarfar og umburðarlyndi var honum hins vegar hugleikið. Eftirfarandi texti fjallar um velvildina og hverju hún fær áorkað ef að baki henni býr þolinmæði og staðfesta...

21. Febrúar 2005

ÓBILGIRNI GETUR LEITT TIL EINANGRUNAR

Umfjöllun þín um málþing VG um samband ríkis og kirkju vekur óneitanlega margar spurningar. Þótt ég hafi ekki verið staddur á þinginu fannst mér ég fá góða innsýn í umræðuna. Það áhugaverða var í rauninni ekki spurningin um aðskilnað ríkis og kirkju heldur hitt hvernig fjölmenningarsamfélagið bregst við fólki af mismunandi trúarhópum. Þar fannst mér frásögn þín af erindi Hönnu Ragnarsdóttur, lektors við Kennaraháskólann einkar athyglisverð. Þótt ég sjái hvað þú ert að fara þegar þú tekur þá nálgun að "fólkið" eigi að laga sig að stofnunum samfélagsins, fremur en að stofnanir samfélagsins lagi sig að fólkinu þegar trúarbrögðin eru annars vegar. Viðfangsefnið sé ...
Grímur 107

20. Febrúar 2005

MÁ ÉG ÞÁ BIÐJA UM DALLAS

...Það var umhugsunarvert við sjónvarpsþáttinn í RÚV í kvöld að ekkert var rætt um áherslur í stjórnmálum, aðeins um titla og vegtyllur. Af hverju er ekki spurt út í afstöðu þeirra Össurar og Ingibjargar Sólrúnar til brennandi mála líðandi stundar og framtíðarsýn? Það mætti til dæmis ræða einkavæðingu í velferðarþjónustunni, heilbrigðiskerfi og skólakerfi, til dæmis spyrja um afstöðuna til Áslandsskóla. Þetta yrðu þá að vísu ekki lengur þættir um fjölskyldudrama heldur eitthvað miklu leiðinlegra, stjórnmál. En ef ...
Sunna Sara

20. Febrúar 2005

NATO GETUR BARA DREPIÐ, EKKI BJARGAÐ

Fram kom í fréttum að í það minnsta 1000 börn hafi látist úr kulda og hungri í Afganistan. 28000 manns eru sögð í bráðri hættu. Foreldrar gefa börnum sínum ópíum til að lina þjáningar þeirra. Á sama tíma eru öflugustu tæki veraldar til staðar í Kabúl á vegum Nató og Bandaríkjamanna en með þeim er bara hægt að drepa, ekki bjarga. Þetta stríð studdu allir flokkar á Íslandi nema VG, er það ekki rétt ...
Rúnar

20. Febrúar 2005

FRAMSÓKN VILL AÐ ÞJÓÐIN SELJI ÞJÓÐINNI

...En að lokum þetta. Þótt þetta hljómi allt farsakennt, og  í anda Framsóknarflokksins eins og hann hefur hagað sér í seinni tíð, þá held ég að þegar allt kemur til alls þá sé það rétt hjá Valgerði Sverrisdóttur, sem haft er eftir henni í fjölmiðlum yfir helgina, að einkavæðing raforkugeirans kunni að færa eignarhaldið úr landi. Tilnefning lífeyrissjóðanna af hennar hálfu, sem væntanlegs eiganda raforkukerfisins, er án efa hugsað sem...

18. Febrúar 2005

MIKILVÆGUR FYRIRVARI BORGARSTJÓRA

...Enda þótt R-listinn hafi til margra ára staðið að þeirri stefnumótun að selja beri hlut borgarinnar í Landsvirkjun eru óneitanlega komnar upp aðrar pólitískar aðstæður með þessum ásetningi stjórnvalda að einkavæða þennan geira. Í ljósi þessa hefði verið hyggilegra af hálfu borgarinnar að fresta því að skrifa undir viljayfirlýsinguna og fá áður viðræður um þau grundvallaratriði sem VG hefur auglýst eftir. Að öðrum kosti gæti stefnt í það að R-listinn í Reykjavík gengi sundraður til þessara verka. ...

18. Febrúar 2005

FJARLÆGJUM ELDFÆRIN

Birtist í Morgunblaðinu 17.02.05.
...Þessi ákafi þykir mér ekki vera aðdáunarverður heldur til marks um undravert dómgreindarleysi. Því miður verð ég að bera svipaðar sakir á höfund síðasta Reykjavíkurbréfs. Hann skrifar sitt bréf á sama tíma og fjölmiðlar segja okkur frá því að Baugur, Samson  og framsóknarvinirnir sem spila með VÍS milljarðana, allir styrkþegar ríkisstjórnarinnar frá einkavæðingu síðustu missera og ára, hafi nú raðað sér upp og bíði þess að fá Landssímann afhentan...

17. Febrúar 2005

TIL HAMINGJU MEÐ VIÐURKENNINGUNA JÓHANNA

Mig minnir að ég hafi séð haft eftir verkamanni úr Spunaverksmiðju hringsins í blaði að rannsóknarblaðamennska væri sprelllifandi á Íslandi. Ég neita því ekki að ég varð hugsi þegar ég las þetta og velti nokkuð fyrir mér ummælunum. Svo kom að því að blaðamenn lyftu sér upp og skiptu með sér blaðamannaverðlaunum. Um þau má hafa langt mál og vafalaust sýnist sitt hverjum um þá sem tilnefndir voru. Það sem mér þykir merkilegast við þessi blaðamannaverðlaun er að Jóhanna Kristjónsdóttir skuli ekki hafa verið tilnefnd til verðlauna fyrir ...Gott að til var Hagþenkir því Jóhanna á skilið að fá verðlaun fyrir blaðamennsku sína. Blaðamannasamtökin og dómnefndin hefðu...
Stefán

17. Febrúar 2005

HVAÐ GERÐI KRISTINN AF SÉR?

Í fréttum er nú rækilega tíundað að mikil sátt hafi skapast innan þingflokks Framsóknarflokksins. Okkur er sagt að þingflokkurinn hafi komið saman til kvöldmáltíðar og yfir þrírétta máltíð tekið Kristinn H. Gunnarsson í sátt. Mér hefur þótt Kristinn maður að meiri fyrir að halda uppi merkjum sjálfstæðrar og gagnrýninnar hugsunar innan þingflokksins og þótt það fremur til marks um slappleika þingflokksins en styrkleika Kristins að hann hafi verið útilokaður frá áhrifum og hvers kyns vegtyllum fyrir afstöðu sína. Nú er það mál manna að þingflokkur Framsóknarmanna hafi ekkert breyst. Þess vegna held ég að glöggum manni, sem ég hitti að máli í dag, hafi ratast satt orð á munn þegar hann spurði...
N.N. 

17. Febrúar 2005

JÓN ÁSGEIR OPNAR GLUGGANN

Á Morgunvakt RÚV hefur verið opnað á nýjung sem ég kann að meta. Það er umfjöllun hins ágæta fréttamanns Jóns Ásgeirs Sigurðssonar um skrif álitsgjafa í erlendum fjölmiðlum. Jón Ásgeir fjallar um leiðaraskrif erlendra stórblaða og kemur víða við. Eins og gefur að skilja er maður stundum sammála hinum erlendu álitsgjöfum og stundum ekki...Síðastliðinn föstudag fjallaði Jón Ásgeir um leiðaraskrif breska blaðsins Financial Times. Leiðarahöfundur var afar ánægður með þá viðleitni Evrópusambandsins að greiða götu markaðsviðskipta í fjármálalífinu. Sérstaklega ámælisverð væri sú árátta þýskra banka, að mati Financial Times, að lána smáfyrirtækjum á heimaslóðum!! Mér varð hugsað til Landsbankans og Búnaðarbankans – hinna sálugu ríkisbanka – sem stunduðu ámóta glæpi á Vestfjörðum og víðar. Þeir höfðu... 

16. Febrúar 2005

UM FJÖLMIÐLA OG SPUNAKERLINGAR

Tvö lesendabréf bárust síðunni eftir sjónvarpsfréttir í gærkvöldi. Í báðum tilvikum voru bréfritarar furðu lostnir yfir framgöngu ríkisstjórnarinnar og ekki síður fjölmiðla.  Ríkissjónvarpið verður fyrir harðri gagnrýni. Jóhann segir að réttara væri að tala um "ríkisstjórnarsjónvarpið". Það "elti Halldór Ásgrímsson þessa dagana fram og aftur um landið og kemur svo með hallærislegar langlokufréttir á kvöldin þar sem Halldór ... er .. að fjalla um einhver deilumál líðandi stundar eins og einkavæðingu Símans með grunnnetinu. Þá fær hann einn að rausa ...og (eru) spilaðir langir eintalsþættir..."  Í bréfi Ólínu er gagnrýni af sama toga í garð fjölmiðlanna sem láti ráðamenn komast upp með "ruglandi" og "þvælu" sem sé með slíkum ólíkindum að menn setji hljóða. Til alþingismanna er beint þeirri spurningu hvort þeir eigi ekki kost á að sækja námskeið í siðfræði og rökfræði! Það er broddur í orðum Ólínu en þó mikil alvara þegar hún spyr...

16. Febrúar 2005

SKYLDI RÍKISSTJÓRNIN SKILJA SJÁLFA SIG?

Ég vil þakka Stefáni fyrir mjög upplýsandi bréf um hlutdeild Íslands í Íraksstríðinu hér á síðunni. Við lestur bréfsins rann upp fyrir mér að sennliega hafi ráðherrarnir tveir DO og HÁ aldrei fyllilega skilið hvað þeir voru að gera nema hvað Halldór hefur sennilega haldið að skuldbinding þeirra félaga hefði átt að leiða til þess að ...
Sunna Sara

16. Febrúar 2005

Helgi Guðmundsson skrifar:SPURT AÐ GEFNU TILEFNI UM RÚV

Fyrir fáeinum dögum var haft eftir menntamálaráðherra í Morgunblaðinu að til stæði að breyta afnotagjöldum Ríkisútvarpsins „í þá veru” að leggja þau niður og verður ekki sagt að ráðherrann hafi verið mjög skýrmælt...Stofnunin gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki og er, þrátt fyrir að útvarpsráð sé kosið af Alþingi, (eða kannski vegna þess) eini frjálsi og óháði fjölmiðill landsins, eini fjölmiðillinn sem hefur þá samfélagsskyldu að veita sem réttastar upplýsingar og á að vera opinn fyrir gagnrýninni umræðu...Æðsta stjórn stofnunarinnar ætti ekki að fylgja kosningaúrslitum, að minnsta kosti ekki einum saman. Finna ætti aðferð til að útvarpsráð ætti rætur í þjóðinni án þess að stjórnmálaflokkarnir væru einu milliliðirnir...er eðlilegast að tengja tekjur útvarpsins fasteignum þannig að af öllum fasteignum séu ekki einungis innheimtir skattar, og gjöld fyrir núverandi veitur, heldur ætti líka að innheimta skatt fyrir veituna sem tryggir traustan aðgang að vönduðum fréttum og menningarefni. Í stað afnotagjaldsins ættu að koma útvarpsgjald innheimt af öllum fasteignum í landinu...þurfa eigendur annarra miðla, sem eru margir hverjir stórir auglýsendur sjálfir, á auglýsingatíma í RÚV að halda...

15. Febrúar 2005

HVER GEFUR HVERJUM?

Birtist í Morgunpósti VG 14.02.05.
Að mörgu leyti hafa undanfarnir dagar verið góðir fyrir peningamenn þessa lands. Landsbankinn sýndi tugmilljarða gróðatölur og stjórnarformaðurinn, Björgólfur eldri, fékk tækifæri til að segja að svona gerðist þegar ríkisbankar væru "leystir úr læðingi". Forsætisráðherrann tók síðan í sama streng á þingi hjá Verslunarráðinu...Ég skal þó játa að ég er hugsi yfir oflátungshættinum í þessum mannskap og þeirri lítilsvirðingu sem félagslegu framtaki er sýnd. Og ég skal fúslega viðurkenna að ónotaleg tilfinning greip mig við lestur DV sl. föstudag. Undir fyrirsögninni, Stóru menninrnir efla andann, vitnar blaðamaður DV í svohljóðandi yfirlýsingu frá ReykjavíkurAkademíunni...

15. Febrúar 2005

"RÍKISSTJÓRNARSJÓNVARPIÐ" TIL BJARGAR HALLDÓRI?

Alveg gengur fram af mér að sjá hvernig ríkissjónvarpið, sem greinilega væri réttara að kalla "ríkisstjórnarsjónvarpið", eltir Halldór Ásgrímsson þessa dagana fram og aftur um landið og kemur svo með hallærislegar langlokufréttir á kvöldin þar sem Halldór er yfirleitt ekki að segja nokkurn skapaðan hlut. Þegar hann er svo að fjalla um einhver deilumál líðandi stundar eins og einkavæðingu Símans með grunnnetinu þá fær hann einn að rausa um það og spilaðir langir eintalsþættir með þessu líka skemmtiefni þar sem hann tuðar um þetta á Verslunarþinginu eða yfir einhverjum hræðum á Framsóknarfundi á Selfossi. Ekki er svo mikið sem haft fyrir því ...Svo er sagt að Halldór sé með heilan hóp auglýsingamanna og áróðursmanna á launum hjá ríkinu...Hvað getum við skattborgararnir gert ..
Jóhann SG.

15. Febrúar 2005

ENDURMENNTUN ALÞINGISMANNA

...Tilefni þess að spurningarnar vöknuðu hjá okkur yfir saklausum kaffibolla í kvöld eru yfirlýsingar forsætisráðherra eftir að hann fékk aftur málið. Fyrst ætlaði ráðherra að svara öllu um Íraksmálið sem þú birtir til allrar hamingju á netinu hjá þér. Eftir að hafa lesið viðtalið misstum við þráðinn í málinu öllu. Það lenti einhvern veginn allt í kross hjá kallinum. Svo ætlaði forsætisráðherra að útskýra Landssímamálið. Það lenti líka í tómu tjóni hjá ráðherranum. Fyrst segir hann að þjónustan batni með sölu Símans, svo segir hann að dreifikerfi landsbyggðarinnar batni við sölu Símans og svo bætir hann við í kvöld að fyrst vilji hann selja Símann og setja svo 800 milljónir í sjóð til að byggja upp dreifikerfi GSM meðfram þjóðveginum því enginn sé að sinna því. Í gærkvöldi fjallaði forsætisráðherra um afnotagjöld RÚV. Þau vill hann leggja niður af því þau séu barn síns tíma, rétt eins og menntamálaráðherrann sem er að bregðast við athugasemdum ESA sem hafa enn ekki borist! Þessi ruglandi og þessi þvæla er með slíkum endemum að...
Ólína

14. Febrúar 2005

NOKKRAR STAÐREYNDIR UM "GRÍMULAUSA SAMKEPPNI"

Talsmaður Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja var mættur eina ferðina enn í fjölmiðla nú um helgina til að gagnrýna Íbúðalánasjóð. Að þessu sinni var umkvörtunarefnið auglýsing sjóðsins...Eða hvað eru samtök banka og verðbréfaftyrirtæka þegar allt kemur til alls? Þau eru samráðsvettvangur þessara fyrirtækja. Starfar hann í anda samkeppni?...Eða skyldu ummæli Guðjóns Rúnarssonar framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja í Ríkissjónvarpinu í gær þar sem hann fordæmdi auglýsingar Íbúðalánasjóðs ekki verða einhverjum frjálshyggjumanninum umhugsunarefni...

13. Febrúar 2005

Rúnar Sveibjörnsson skrifar:“ANNAÐ HVORT ERT ÞÚ KOMMÚNISTI EÐA FÍFL”

...Ófaglærðir iðnaðarmenn með fölsk sveinsbréf og bílpróf frá láglaunaríkjum eru teknir fram fyrir íslenska iðnarmenn. Dapurlegt er að landið sem margir þessara manna koma frá er stjórnað af svokölluðum Kommúnistaflokki Kína, sem sennilega er stærsti fasistaflokkur sögunnar og sá alræmdasti. Þrælahald barna viðgengst, ótrúlegur vinnutími, ekkert frí og óskiljanlega lág laun. Margar þekktar vörur sem þið þekkið, ljósaperur, fatnaður, leikföng, raftæki og fleira, eru framleiddar af kínverskum þrælum í nafni kommúnismans. Eins og sést á þetta ekkert skylt við kommúnisma...

11. Febrúar 2005

ÞEIR LJÚGA ENGU VESTRA

Það sem átti að verða skýrt reyndist svo loðið og teygjanlegt. Ég á við útskýringar forsætisráðherra á því sem gerðist í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Vestur í Bandaríkjunum hugsa menn skýrar og koma vel fyrir sig orði. Á blaðamannafundi um hádegisbil í utanríkisráðuneytinu bandaríska, 18. mars 2003, sagði Robert Boucher, talsmaður ráðuneytisins: “Það eru 30 lönd sem hafa fallist á að vera í hópi þeirra þjóða sem vilja afvopna Íraka tafarlaust. Þetta eru löndin sem við höfum leitað til og spurt: “Viljiði vera með?” og þau hafa sagt: “Já.” Talsmaður Colin Powells les síðan upp viljugu ríkisstjórnirnar og þar er Ísland á blaði...Það sem kannski er sérstaklega áhugavert við kattarþvott forsætisráðherra er að ráðherra er lítt og ekkert spurður um hinn langa aðdraganda þess að listi hinna viljugu landa verður til og vonandi hafiði í stjórnarandstöðunni meira þrek til að spyrja en kom fram í umræðum um málið í vikunni Ögmundur. Til dæmis um þetta...
Stefán

10. Febrúar 2005

HVORT VAR ÞAÐ ALBERT EÐA ÓLAFUR, HALLDÓR?

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kom fram í löngu viðtali á Stöð 2 í gærkvöldi. Í dag birtist síðan útskrift viðtalsins undir fyrirsögninni Halldór gerir upp Íraksstríðið. Þetta var vægast sagt óheppileg fyrirsögn því Halldór óð lengra út í fen mótsagna og nýrra yfirlýsinga sem gera hlut þeirra Davíðs Oddsonar enn verri en nokkurn hafði órað fyrir. Í fyrsta lagi skulum við staðnæmast við við mótsagnirnar. Forsætisráðherrann núverandi segir að málið hafi verið af slíkri stærðargráðu að ekki hafi verið annað fært en forsætisráðherra kæmi að því auk utanríkisráðherra. Á hinn bóginn er jafnframt svo að skilja að málið sé svo smátt að...

10. Febrúar 2005

VAR ÞETTA KENNT Í LÆRÐA SKÓLANUM?

Ögmundur viltu spyrja fólkið þitt hjá símanum, hvernig 2-3 símaheimtaugar inn í hús, frá sitt hvoru símakerfinu geti lækkað símakostnað. Alla vega viljum við í Snotru aðeins eina símaheimtaug og eina rafmagnsheimtaug. Einnig nægir okkur eitt vatnsrör. Er ef til vill hægt að spara með að hafa...
Runki frá Snotru

9. Febrúar 2005

FRAMSÓKN ÞJÓNAR FJÁRMAGNI

Halldór Ásgrímsson forsærisráðherra er nýkominn úr skíðaleyfi. Þaðan hélt hann beint á ársþing Verslunarráðsins þar sem hann ræddi við bissnissmenn um ágæti einakvæðingar, sérstaklega á símaþjónustu. Á sama tíma var óskað eftir nærveru ráðherrans við umræðu um sama efni á Alþingi. Látum þessa framkomu við þingið liggja á milli hluta svo og blíðmælgi Halldórs og skjall við peningamennina. Þjónkun Frmsóknar við fjármagnið er ekki ný af nálinni. Hins vegar virðast árásir formanns Framsóknarflokksins á samfélagsþjónustuna og opinberan rekstur færast í aukana auk þess sem ýmsar fullyrðingar hans í tengslum við einkavæðingu standast einfaldlega ekki skoðun. "Ég fullyrði", sagði Halldór...

8. Febrúar 2005

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: Á MORGUN KEMUR NÝR DAGUR

Morgunblaðið sagði frá því um daginn að launamunur hafi aldrei verið meiri. Sama dag birti Fréttablaðið frétt um að bankarnir hefðu grætt 41 milljarð á síðasta ári. Samþjöppun fyrirtækja eykst dag frá degi og fjármálafáveldið herðir tökin á sama tíma og stórir hópar íslenskrar alþýðu lifir við fátækramörk. Út í hinum stóra heimi deyr fólk úr hungri í tugþúsundatali og fólki er slátrað af  miskunarlausum stríðsherrum. Óréttlætið er óbærilegt...Börn okkar og barnabörn eiga heimtingu á því að erfa réttlátt þjóðfélag.

8. Febrúar 2005

SÍMADÓNARNIR

Í lesendabréfi hér á síðunni fer Ólína mikinn út af því að Skjár einn skuli senda út knattspyrnuleiki með enskum þulum og þar á eftir ræðst hún harkalega að yfirstjórn Símans fyrir að bjóða notendum Breiðbandsins upp á kóngabláar myndir á Adult Channel.
Sammála er ég Ólínu um það að ekki er boðlegt að knattlýsingar fyrir Íslendinga fari fram á ensku. Hún lætur hins vegar vera að kvarta undan því að...
Með góðri kveðju,
Jón frá Bisnesi

7. Febrúar 2005

ENN PUKRAST EVRÓPUSAMBANDIÐ - HVAÐ UM ÍSLAND?

Í apríl árið 2002 varð uppi fótur og fit þegar breska stórblaðið Guardian upplýsti hvaða kröfum Stjórnarnefnd Evrópusambandsins hefði ákveðið að tefla fram gagnvart viðsemjendum sambandsins í hinum svokölluðu GATS samningum. ...Í kjölfarið var ákveðin ný áætlun. Sérhver ríkisstjórn skyldi koma óskum sínum leynilega á framfæri ... Í byrjun ágúst á síðasta ári voru svo sett ný tímamörk ...fyrir “endurskoðaðar óskir” sem nú eiga að liggja fyrir í maí á þessu ári. Hér á landi hefur BSRB staðið framarlega í viðleitni að halda stjórnvöldum við efnið og upplýsa um kröfur Íslands. Hefur það gengið misjafnlega en þó batnað frá því sem í upphafi var og hefur utanríkisráðuneytið boðað til samræðufunda um þessi mál ...þótt út af borðinu standi enn krafa BSRB um að þessar viðræður fari að öllu leyti fram fyrir opnum tjöldum. Enn mun BSRB ...

6. Febrúar 2005

SIGUR LÝÐRÆÐISINS Í FRAMSÓKN

Eftirfarandi frétt var að berast . “Laganefnd Framsóknarflokksins hefur komist að þeirri niðurstöðu að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, sem haldinn var 27. janúar, hafi verið ólöglegur… Ég sendi þér línu um daginn Ögmundur, þar sem ég trúði ekki öðru en að flokkurinn gæti  komið í veg fyrir fjölgun í flokknum og það konur.  þeim tókst það. Eitt núll fyrir Framsókn. Gamlir félagar í flokknum geta nú aftur tekið gleði sína, allavega...
Runki frá Snotru.

6. Febrúar 2005

OPINBERIR LÖGBRJÓTAR OG KLÁMHUNDAR?

...Mér finnst þetta vera svo mikið mál að það ætti að svipta Skjá 1/Símann útvarpsleyfinu, eða láta forstjórann fara og breyta ákvörðun hans. Þú mátt í leiðinni spyrjast fyrir um það hjá ábyrgðarmönnum Símans sem sendir dag hvern út klám á Breiðbandinu (Adult Channel) hvort þær útsendingar séu liður í menningarviðleitni hins opinbera, eða hluti af jafnréttisáætlun ríkisstjórnarinnar og Símans. Hvernig á að vera hægt að gera kröfur til einkastöðva þegar hið opinbera fer á skjön við lög og úrskurði og hagar sér eins og hver annar klámhundur? Mér finnst í þessu enginn munur á framkvæmdastjóra súlustaðarins og forstjóra Símans. Þú mættir líka nefna stjórnarmenn Símans og Skjás 1 á nafn í máli þinu til að ...
Ólína

6. Febrúar 2005

ÞAGNARSKYLDA EÐA YFIRHYLMING?

Birtist í Morgunlaðinu 05.02.2005
...Öll hafa þau lýst því yfir að þau væru reiðubúin að láta upplýsa hvað þau sögðu á fundinum, einnig Halldór Ásgrímsson. Var honum ef til vill ekki alvara þegar hann sagði á Alþingi að fyrir sitt leyti mætti birta ummæli sín? Treysti hann því að stjórnarmeirihlutinn í utanríkismálanefnd, undir forystu Sólveigar Pétursdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, myndi reyna að þröngva þagnarskyldu upp á nefndarmenn?  Til upplýsingar er hér birt ...

5. Febrúar 2005

“KALDHÆÐNI ÖRLAGANNA” Í ÞJÓÐARBÓKHLÖÐUNNI

Ekki vísast hér til titils hinnar frábæru bókar eftir verðlaunahöfundinn Cassie Miles, sem út kom árið 1994, tilheyrandi þeirri ágætu rauðu seríu; Ástir og afbrot, og má sem flestar aðrar perlur bókmenntanna nálgast á þjóðbókasafni Íslendinga. Nei, hér vísast til ummæla Sigrúnar Klöru Hannesdóttur landsbókavarðar í DV í gær þar sem hún “harmar” nýskeðar “uppsagnirnar” á gamalgrónu starfsfólki Þjóðarbókhlöðunnar og segir það “kaldhæðni örlaganna að nýtt starfsmat sem færi starfsmönnum hærri laun þurfi að kosta nokkra þeirra vinnuna”. Með öðrum orðum kennir Sigrún þeim sem eftir sitja um atvinnumissi hinna. Þetta verður að teljast ...
Fyrrverandi starfsmaður Landsbókasafns Íslands í Safnahúsinu við Hverfisgötu.

4. Febrúar 2005

FARANGUR FRAMSÓKNAR OG SAKLEYSINGJAR MORGUNBLAÐSINS

Páll Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins mætti í Kastljós Ríkisútvarpsins í kvöld og talaði opinskátt. Ummæli hans um stuðning Íslands við innrásina í Írak voru þess eðlis að menn setti hljóða. Helst má jafna þeim við hrikalegt Reykjavíkurbréf  Morgunblaðsins um sama efni um síðustu áramót. Boðskapur Mogga og Páls voru af sama toga: Innrásin í Írak kann að hafa verið slæm en hvað annað gátum við gert í ljósi þess hve mikið við eigum undir Bandaríkjamönnum... Það sem mér finnst skuggalegast við þessa röksemdafærslu er að þingmanni Framsóknarflokksins finnist í lagi að lýsa stuðningi við stríðsrekstur Bandaríkjamanna þvert á...

4. Febrúar 2005

TELUR ÞÚ AÐ BUSH MUNI SKERÐA ALMANNATRYGGINGAR?

Ef bandaríska þjóðin væri spurð þessarar spurningar myndi hún án efa svara játandi. Þar með væri ekki sagt að hún væri fylgjandi niðurskurði í tryggingakerfinu. Þetta datt mér í hug þegar ég sá skoðanakönnun Fréttablaðsins um Össur og Ingibjörgu Sólrúnu. Þar var spurt hvort þeirra menn teldu að myndi vinna í fyrirhuguðu formannskjöri í vor. Þeir sem hanna spurningar af þessu tagi vita að skoðanakannanir geta verið skoðanamyndandi. Eru þetta heiðarleg vinnubrögð? Ekki finnst mér það. Ekki svo að skilja að ég hafi...
Sunna Sara

4. Febrúar 2005

ÖL OG AUGLÝSINGAR

Eru vinstri menn uppteknir af umbúðum á léttöli...
mkv
Þráinn

3. Febrúar 2005

DAUÐINN Á GAZA KL. 23.00

Allt of sjaldan sinnir Ríkissjónvarpið því mikilvæga hlutverki að sýna athyglisverða og vekjandi þætti um alþjóðamál. Meðan svo er ástatt hlýtur það að vera lágmarkskrafa að það litla sem þó er boðið upp á sé sýnt á skikkanlegum útsendingartíma. En því er nú aldeilis ekki alltaf að heilsa. Í gærkvöldi var heimildarmyndin Dauðinn á Gaza á dagskránni og var kynnt á heimasíðu RÚV með eftirfarandi hætti...
Þjóðólfur

1. Febrúar 2005

Jóhann Tómasson skrifar: SIÐLEYSI VINSTRI MANNA

Mér gengur erfiðlega að skilja siðfræði hægri manna. Raunar hef ég aldrei skilið hvernig einstaklingshyggja geti verið hugsjón. Eða að Kristur geti verið leiðtoginn í lífi hægri manna, hvað þá helgaður þeim. Ein af höfuðklisjum hægri manna er að vinstri menn geti ekki stjórnað vegna óráðsíu í fjármálum. Hannes Hólmsteinn grípur hvert tækifæri til að fara með ellefta boðorðið, sem hann kallar svo og segir vinstri menn ekki kunna að virða (fremur en hin): “Þú skalt ekki gera góðverk á kostnað náunga þíns.” Raunar hefur mér virzt að aðal kennisetning hægri manna í siðfræði sé þessi...

1. Febrúar 2005

NÝR FRÉTTASKÝRANDI Á RÍKISÚTVARPINU?

Auðvitað á að dæma menn af verkum þeirra en ekki merkimiðum sem á þá eru hengdir eða þeir hengja á sjálfa sig. Þannig hef ég aldrei verið andvígur því að fréttamenn séu í pólitískum flokkum – það er einfaldlega þeirra mál. Það er hins vegar mál okkar allra að dæma þá af fréttum þeirra. Þó skal ég viðurkenna að í þessu efni geta verið takmörk. Tvisvar sinnum í tengslum við kosningarnar í Írak hefur fulltrúi Bandaríkjahers verið fenginn til að tjá sig í Ríkisútvarpinu um pólitíska þróun í Írak. Maðurinn heitir Philip S. Kosnett og er kynntur sem aðstoðarsendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Fréttastofu RÚV finnst maðurinn greinilega áhugaverður vegna þekkingar hans á Írak. Þar var hann innsti koppur í búri hernámsliðsins enda sérfæðingur í því sem bandaríkjamenn kalla “counter-terrorism”, baráttu gegn hryðjuverkum. Í Najaf fékk hann sérstaka heiðursorðu fyrir ...

31. Janúar 2005

Baldur Andrésson skrifar: FLÍSIN OG BJÁLKINN/íRAK

...Ráðherrarnir tveir...brutu lögskyldu við stofnun Alþingis og fóru á svig við ríkisstjórn í galinni ákvarðannatöku - þeir eru of smáir í sér til að axla þá ábyrgð,sem þeir sjálfir þó mikla sig af að bera. Þjóð þeirra blöskrar. Íraksmálið er tröllaukið heimsmál. En það er ekki síður stórt innanríkismál á Íslandi því að lýðræði og lögum er ögrað vegna þess. Robert Marshall hefur vaxið að virðingu en virðing Halldórs og Davíðs vex ekki...

30. Janúar 2005

STÓRT OG LÍTIÐ

... þegar fréttamaður telur sig geta sannað að forsætisráðherra hafi sagt ósatt þá hljóti það að vera mál sem fréttastjóri þurfi að skoða sérstaklega áður en hann les aðfararorðin örlítið rjóður í kinn. Hafi Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, lesið og kynnt sér gögnin átti formaður fagfélagsins ekki að segja starfi sínu lausu ...
Stefán

30. Janúar 2005

NEYÐARFUNDUR Í FRAMSÓKN

Í fréttum í dag kemur fram að Framsóknarmaddömurnar hafi verið á súpufundi á Hótel Borg. Rætt var um þann alvarlega atburð að 43 nýir félagar gengu í flokkinn. Laganefnd flokksins vinnur sleitulaust að lausn málsins samkvæmt fréttum, eftir að Framkvæmdastjórn hafði fjallað um málið. Er nema von að forystan sé furðu lostin, stefnan týnd, ekki má greina á milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins. 43 nýir félagar, það gengur ekki upp í deyjandi flokki. Hef ég misst af einhverju? Þau hljóta að geta ...
Runki frá Snotru.

30. Janúar 2005

ERU EKKI ALLIR SÁTTIR NÚNA?

... Eru eigendur Stöðvar 2 komnir með pólitískar krumlur í fréttastofuna varðandi mannahaldið? Við vitum að bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur líta á fréttastofur sem mikilvæg valdatæki þar sem eðlilegt sé að þeir hafi sína spotta til að toga í.
Hvað sem því líður er ljóst að viðbrögð stjórnenda Stöðvar 2 kæta nú Framsókn. Það verður athyglisvert að fylgjast með því hvort fréttastofa Stöðvar 2 lyppast niður eða heldur áfram að reyna að upplýsa felumál Halldórs Ásgrímssonar gagnvart þingi og þjóð.

29. Janúar 2005

Vinstri grænn af öfund?

Mikil drift og hugmyndaauðgi hefur einkennt ráðherratíð framsóknarkonunnar Valgerðar Sverrisdóttur. Ég vil einungis tína til fáein dæmi þessu til sönnunar.
Af miklum rausnarskap gaf hún dugmiklum einstaklingum Landsbankann með húð og hári við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Þetta hafði engum stjórnmálamanni tekist áður. Af enn meiri rausnarskap gaf hún dugmiklum SÍS-drengjum Búnaðarbankann með húð og hári við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Þessa gjörð mun enginn leika eftir henni heldur. Af miklum dug, krafti og fyrirhyggju kom hún framkvæmdunum við Kárahnjúka í gang en þær hafa nú þegar...
Þorkell Hrafnkelsson frá Dratthalastöðum

28. Janúar 2005

SIÐFRÆÐI MARKAÐSSINNA OG RÁÐHERRANN HAMINGJUSAMI

Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir rangt að fyrirtæki eins og Landsvirkjun niðurgreiði rafmagnsnotkun landsmanna. Slíkar niðurgreiðslur eigi að koma frá skattborgurunum úr ríkissjóði. Þetta er vissulega samkvæmt kokkabókum peningafrjálshyggjunnar sem Framsóknarmenn ... Allt þetta þykir Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra og flokkssystur Jóhannesar Geirs, hið besta mál ... áfram heldur hún ótrauð, hamingjusöm í þeirri vissu að hún sé að gera rétt. Allt í anda yfirlýsingar sem hún gaf við umræður um nýskipan í raforkurekstri 26. nóvember: Það er heldur ekkert launungarmál að það voru ekkert óskaplega margir aðdáendur frumvarpsins hér á landi þegar það kom fyrst fram. Það er eiginlega alveg stórmerkilegt að það skuli þó hafa náð að verða að lögum og vera komið á þann stað í stjórnsýslunni sem raun ber vitni. Ég er þó alltaf jafnhamingjusöm ...

27. Janúar 2005

ÓVÆGIN FRAMSÓKN – GAGNVART ÖÐRUM EN FRAMSÓKN

Framóknarflokkurinn á í erfiðleikum. Sjaldan hefur það komið eins vel fram og í dag. Stöð 2 gerði mistök í fréttaflutningi sínum varðandi tímasetninguna á því hvenær (ekki hvort) Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson komu Íslendingum á lista yfir þjóðir, sem lýstu vilja til að styðja innrás í Írak gegn vilja Sameinuðu þjóðanna. Nú snýst allt um dagsetningar og hver segir satt og rétt frá. Það er vissulega verðug umræða. Í henni á Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í vök að verjast. Þess vegna tekur hann og öll Framsókn fegins hendi feilspori hjá Stöð 2. Fréttamaðurinn og Stöð 2 biðjast hins vegar afsökunar. Öllum geta orðið á mistök. Allt veltur á hvernig viðkomandi bregðast við. Það er styrkur fréttamannsins, Róberts Marshalls, og Stöðvar 2 í þessu tilviki  að viðurkenna mistökin. Þeir sem þannig bregðast við verða ekki fyrir varanlegum skaða. En þetta nægir ekki hinni grandvöru Framsókn. Á vefsíðu Framsóknarflokksins segir ...

26. Janúar 2005

Baldur Andrésson skrifar:"Ekkert þras við Geira gas/ Ekkert mas við vændiskonu ..........."

...Eftir langa mæðu ráðherrans fékkst Eiríkur Tómasson til að slá botninn í þrasið fyrir skömmu. Niðurstaða Eiríks var að ákvörðunin um stuðning við Íraksinnrás hefði verið minniháttar utanríkismálefni á Íslandi.  Ákvörðun Íslands og nokkurra ríkja var áður sögð forsenda Íraksinnrásar, sem samkvæmt þessu var smámál, ekki heimsviðburður. Þetta er lögmannsálitið. Þjóðaræsingur Íslendinga stafar af vanþekkingu þeirra á eigin lýðræðiskerfi og vanmati þeirra á ráðherravaldi. Íraksinnrás var og er ...

26. Janúar 2005

EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ VINDUR UPP Á SIG

... Þegar fjölmiðlar vöktu nú nýlega máls á því að samkvæmt lögunum geta fyrrverandi ráðherrar og alþingismenn verið á eftirlaunum, jafnframt því að gegna launaðri vinnu fyrir ríkið, stekkur Halldór Ásgrímsson fram á sjónarsviðið og segir að breyta þurfi lögunum, menn hafi hreinlega ekki áttað sig á að svona væri þessu varið! Las hann ekki frumvarpið? Eftirlaunafrumvarpið var einfalt og auðskilið og þetta hlaut öllum að vera ljóst sem kynntu sér málið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingar, sagði í sjónvarpsviðtali að þetta væri afleiðing af flýtimeðferð frumvarpsins, nær hefði verið að gefa sér betri tíma svo sníða mætti agnúa af og ná sátt um þessar breytingar. Þessu er ég algerlega ósammála ... Ömurlegastur er þó hlutur Alþýðusambands Íslands í þessu máli og get ég fullvissað félaga mína á þeim bænum um að nú er farið að þykkna í okkur sem stöndum að hinum opinberu sjóðum. ASÍ leyfir sér að spyrða saman sérsniðinn lífeyrissjóð ráðherra og þingmanna annars vegar og lífeyrissjóði ríkis- og bæjarstarfsmanna hins vegar, sem BSRB og önnur samtök ...

25. Janúar 2005

FRÁ ÖRBIRGÐ TIL ATHAFNA

Langt og farsælt samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í ríkisstjórn hefur borið ríkulega ávexti. Af mörgu er að taka en ég vil að þessu sinni vekja athygli á róttækri tilraunastarfsemi stjórnarinnar í málefnum þeirra sem þurft hafa á virkilegu stuðningsátaki að halda í lífsins þrengingum...Órækur vitnisburður hér um er að einmitt nú í þorrabyrjun flytur pressan okkur þau lygilegu en jafnframt ósegjanlega gleðilegu tíðindi að ... Björgólfur nokkur Thor Björgólfsson ...verði að líkindum fyrsti Íslendingurinn til að komast á lista Forbes yfir ríkasta fólk í heimi...
Jón frá Bisnesi

25. Janúar 2005

HVERT ER HLUTVERK FJÖLMIÐLA Í ÍRAKSDEILUNNI?

... Það er undarlegt að fjölmiðlar skuli ekki allir líta á það sem hlutverk sitt að draga fram í dagsljósið gögn sem upplýsa málið í stað þess að gera útúrsnúninga Halldórs Ásgrímssonar um meinta vanþekkingu stjórnarandstöðu á utanríkismálum að aðalatriði í fréttaflutningi, eins og Ríkissjónvarpið gerði t.d. í kvöld. Ekki var nóg með að útúrsnúningsbútur úr ræðu Halldórs í þinginu í dag væri birtur heldur fékk hann – og hann einn – að árétta árásir á gagnrýnendur sína í sérstöku viðtali sem greinilega var tekið eftir ræðuhöldin. ...

24. Janúar 2005

KALLAÐ EFTIR UMRÆÐU UM ALDURSTENGDAR LÍFEYRISGREIÐSLUR

... Þetta þýðir að langskólagengið fólk fær rýrari réttindi en þeir sem koma snemma inn á vinnumarkað og konur sem eru lengi heima vegna barneigna á fyrri hluta starfsævinnar og koma þar af leiðandi seint inn á  launamarkað, fá rýrari réttindi en eiginmennirnir sem fara snemma að greiða iðgjöld inn í lífeyrissjóði. Þarf ekki að ræða þetta betur áður en ákvörðun er tekin? Þetta er ekki mál sem á að leiða til lykta í lokuðum klúbbi lífeyrissjóðsstjórna. Þetta kallar á víðtæka samfélagsumræðu ...

24. Janúar 2005

PALESTÍNA


Við kynþáttamúrinn.
Í framhaldi af umfjöllun um Palestínu hér á síðunni í tengslum við för okkar Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands og Borgþórs Kjærnested (skipuleggjanda ferðarinnar fyrir hönd fél. Ísland Palestína) hefur ég fengið talsverð viðbrögð og er ljóst að áhugi manna að kynna sér ástandið á þessu svæði fer vaxandi. Mikið er um Palestínu fjallað í fjölmiðlum víða um heim en furðu má sæta hve þöglir stóru fjölmiðlarnir sem starfa á heimsvísu eru um þau mannréttindabrot sem daglega eru framin á Palestínumönnum. Hér á landi...

23. Janúar 2005

EKKI ÖLL Í SAMFYLKINGUNNI – SEM BETUR FER !

... Í hádegisfréttum RÚV í dag var haft eftir mínum ágæta félaga Gylfa Arnbjörnssyni, framkvæmdastjóra ASÍ, að verkalýðshreyfingin muni fylkja sér að baki formanni Samfylkingarinnar hver sem hann verði. Í útvarpsviðtalinu tekur Gylfi mjög eindregna afstöðu með ...

22. Janúar 2005

VELKOMINN Í HÓPINN EINAR ODDUR!

Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, hvatti til þess í fjölmiðlum í dag að ríkisstjórnin hætti við að sækjast eftir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd eins og unnið hefur verið að. Taldi Einar Oddur að um gæti verið að ræða tilkostnað sem næmi milljarði króna. Áður hafa svipuð viðhorf ...

22. Janúar 2005

TRÚVERÐUGLEIKI FORSÆTISRÁÐHERRA Í HÚFI: HVAÐ SAGÐI HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Á FUNDI UTANRÍKISMÁLANEFNDAR 19. FEBRÚAR 2003?

Formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að leynd verði ekki aflétt af fundargerðum utanríkismálanefndar Alþingis ... Menn skulu ekki gefa sér að hugsanlegur leki úr gögnum utanríkismálanefndar í fjölmiðla sé frá stjórnarandstöðuþingmönnum kominn ... Í umræðum á Alþingi síðastliðið haust fór Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og fulltrúi í utanríkismálanefnd fram á að leynd yrði aflétt af fundargerðum utanríkismálanefndar og í síðustu viku tók þingflokkur Samfylkingarinnar undir þá kröfu ... Hvers vegna treystir Halldór Ásgrímsson sér ekki til að láta upplýsa um sín eigin orð og yfirlýsingar? Hvað óttast hann? Halldóri Ásgrímssyni er í lófa lagið að greina frá því með framvísun fundargerðar um hvað fram fór á fundi utanríkismálanefndar 19. febrúar, því hverjum og einum er í sjálfsvald sett að upplýsa um eigin yfirlýsingar ...

21. Janúar 2005

HVAÐ ERU STAKSTEINAR MORGUNBLAÐSINS AÐ SEGJA OKKUR?

... Getur verið að Staksteinar séu að veita okkur innsýn í sálarlíf Morgunblaðsins, jafnvel Sjálfstæðisflokksins? Þar virðist gilda formúlan að ef þú ekki makkar rétt, þá verður þér refsað!!! Ristir virðingin fyrir fréttamennsku ekki dýpra en þetta? Eða einfaldlega fólki sem er á öndverðum meiði; er gengið út frá því að pólitískir eiginhagsmunir ráði alltaf för? Hrikalegust er sú vanvirðing sem Staksteinar sýna Framsókn. Það er gengið út frá því sem vísu að hún ...

20. Janúar 2005

VANDAÐRI VINNUBRÖGÐ Í SAMFYLKINGUNNI?

Mikið er ég sammála Þórunni Sveinbjarnardóttur alþingiskonu í útvarpsfréttum í gær að þörf sé á vandaðri vinnubrögðum í Samfylkingunni. Hins vegar þykir mér hún vera djörf að fullyrða að slíkt yrði tryggt með Ingibjörgu Sólrúnu við stýrið í stað Össurar. Horfir hún kannski til Framtíðarnefndarinnar og vinnubragðanna þar? Skyldi það vera fyrirmyndin? Það er ekki langt síðan að sú nefnd sendi frá sér ...
Anna   

20. Janúar 2005

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN OG MANNRÉTTINDABROTIN Í ÍRAK

Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins á erfitt þessa dagana. Það er mjög skiljanlegt í ljósi þess hlutverks sem hann hefur tekið að sér. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hefur nefnilega tekið á sig þá byrði að verja innrásina í Írak og hernám landsins ... Ég tel að á okkur hvíli siðferðileg og pólitísk krafa að láta mannréttindabrot ekki liggja í þagnargildi. Ekki heldur þegar þeir Bush,  Blair og leppar þeirra í Írak, Allawi og félagar eiga í hlut. Ég held að það væri hollt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að leiða ögn að þessu hugann. Er ekki eitthvað að þegar fjölmennur stjórnmálaflokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn er farinn að verja ofbeldi og mannréttindabrot eins og hann nú gerir í Írak ...?

18. Janúar 2005

RÁÐSTÖFUN FJÁRMUNA ER PÓLITÍSK

... Þegar nú er rætt um ráðstöfun fjármuna þjóðarinnar erlendis verða menn að geta tekið því að til samanburðar við framlagið til hamfarasvæðanna hafi menn framlag ríkisstjórnarinnar til NATO upp á 300 milljónir króna. Það er vesalt að bera sig illa undan því að þessi mál séu sett í pólitískt samhengi ... Þótt hörmungarnar vegna hamfaranna ógurlegu séu okkur öllum sýnilegar og augljósar og veki hluttekningu okkar allra þá skulum við ekki gleyma því að á hverjum einasta degi deyja yfir 30 þúsund börn úr vannæringu og hungri. Þar veldur pólitík. Á kannski líka að biðjast afsökunar á að minnast á það? Þegar allt kemur til alls hljótum við að spyrja hver það yfirhöfuð er, sem á að biðjast afsökunar. Gæti verið að sá maður heiti ...

18. Janúar 2005

40 ÍRASKIR STRÍÐSKLUKKUTÍMAR

... Ríkisstjórnin ákvað að gefa eina krónu á mann. Undan því kemst Davíð Oddsson ekki. Þvaðrið um að hvergi nokkurs staðar í heiminum sé neitt sagt í þessa átt (eins og  gagnrýni VG) af einum né neinum (rétt eins og tal Björns Bjarnasonar um að allir í Evrópu nema VG vilji vera í NATO) er svo eftir öðru ... en í Bandaríkjunum hefur það verið gagnrýnt af mannúðarsamtökum og friðarhreyfingum að framlag höfðingjanna í Hvíta húsinu til hjálparstarfsins jafngildi rúmlega 40 klukkustunda stríðsrekstri í Írak miðað við það sem hann hefur kostað undanfarin tæp tvö ár ...
Haffi

16. Janúar 2005

ÞEGAR MIKIÐ LIGGUR VIÐ

Þótt oft sé lífið þrungið heift og harmi
og hörmungarnar kvelji marga sál
þá býr í hverjum manni virkur varmi
og von sem getur tendrað mikið bál
því þegar hjörtun fyllast eymd og ótta
og angist rekur sálirnar á flótta
þá er rétt að okkar besti bjarmi
bæti öll hin mestu vandamál.
Kristján Hreinsson, skáld

15. Janúar 2005

Baldur Andrésson skrifar: SKYNSEMIN ÆTTI AÐ RÍKJA

...Er rangt að tala í einu orðinu um skelfilega stríðsstefnu og í hinu orðinu um skelfilegar náttúruhamfarir ? Líklega ekki því mannlegir vitsmunir hefðu í báðum tilvikum getað afstýrt miklum hörmungum. Þegar skynsemin sofnar þá vaknar villidýrið og þá vaknar líka kæruleysið um hag náungans.Slíkt leiðir til mannlegra hamfara og stundum til varnarleysis gegn hamförum náttúrunnar....

15. Janúar 2005

HVAR VAR KJÓLL VALGERÐAR?

Það var frábær hugmynd hjá Björgólfi Guðmundssyni að láta bjóða upp fötin sem hann klæddist þegar hann undirritaði "kaupin" á Landsbankanum og gefa andvirðið í söfnun til bágstaddra. Enn sniðugra var hjá Jóhannesi í Bónus að kaupa gallann á tíu milljónir. Það eina sem vantaði upp á, var að Valgerður iðnaðar- og bankamálaráðherra gæfi kjólinn sem hún var í þegar hún afhenti Björgólfi bankann. Það hefði farið vel á því að Landsvirkjun hefði keypt. Friðrik Sophusson hefði þó sennilega...
Sunna Sara

13. Janúar 2005

VERÐUR VEGURINN OPNAÐUR?


Sá sem lætur ekki hjartað ráða för endar í blindgötu. Den der ikke bærer hjertet på vejen ender vejen blindt.
(Lífssannindi úr suður-jóskum háskóla)

 Myndin hér að ofan er dæmigerð fyrir það sem sjá má víða í Palestínu. Góðum vegi hefur verið lokað með stórum jarðvegshrúgum. Annars staðar eru vegirnir grafnir í sundur: Allt til að torvelda Palestínumönnum verslun og almennar samgöngur á milli bæja. Vegasamgöngum á milli landránsbyggða Ísraela á herteknu svæðunum er hins vegar haldið í góðu horfi ... Nú að afloknum kosningum í landinu spyrja menn því hvort samskipti Ísraela og Palestínumanna eigi eftir að breytast, hvort opna eigi leið inn í framtíðina. Skírskotun til vegarins hefur þannig hvort tveggja í senn; bæði eiginlega og óeiginlega merkingu ...

11. Janúar 2005

RÆNT Í RÓM


Mordechai Vanunu
hafði starfað við kjarnorkuáætlun Ísraels í 9 ár þegar hann ákvað árið 1985 að hefja baráttu gegn smíði Ísraelsmanna á kjarnorkuvopnum. Hann hafði gert sér grein fyrir þeirri hættu sem mannkyninu stafaði af þessum vopnum. Yfir kjarnorkuáætlun Ísraelsmanna hvíldi þá sem nú mikil leynd. Kjarnorkuvopnahreiður voru neðanjarðar og rækilega falin fyrir öllum utanaðkomandi. Jafnvel bandarískir eftirlitsmenn sem vildu hafa eftirlit í þessum efnum á sjöunda áratugnum fengu ekkert að vita.

10. Janúar 2005

RADDIR VONAR

Í heimsókn okkar félaganna Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands og Borgþórs Kjærnested, fulltrúa félagsins Ísland Palestína, til Palestínu og Ísraels hittum við framan af einkum fulltrúa Palestínumanna og kynntumst hlutskipti þeirra, nokkuð sem hafði djúp áhrif á okkur eins og fram hefur komið í pistlum hér á heimasíðunni. Það var því mikill léttir að kynnast einnig gyðingum í Ísrael sem mótmæla í orði og athöfn framferði ísraelsku ríkisstjórnarinnar og ofbeldi og ofsóknum Ísraelsríkis á hendur Palestínumönnum. Fulltrúa eins slíks hóps hittum við í Tel Aviv. Þetta var ungt fólk sem neitar að taka þátt í hernáminu; neitar að gegna herþjónustu á herteknu svæðunum. Í landinu nú eru einir fjórir slíkir hópar og neita þeir á mismunandi forsendum. Hugrekki til að segja nei, Courage to refuse, heitir sá hópur sem við hittum ...

9. Janúar 2005

FORSETAKOSNINGAR Í PALESTÍNU Í DAG


Í dag fara fram forsetakosningar í Palestínu og er myndin hér að ofan tekin á kosningamiðstöð undir kvöldið.

Þótt yfirgnæfandi meirihluti Palestínumanna fagni tækifæri til að taka þátt í forsetakosningunum í dag eru tilfinningar engu að síður blendnar. Fáein orð um þetta tvennt ...

8. Janúar 2005

MINNIR ÓÞÆGILEGA Á NASISMANN


Í Þýskalandi nasismans var framinn einhver hrikalegasti glæpur mannkynssögunnar. Fórnarlömbin voru gyðingar, sem voru ofsóttir og myrtir milljónum saman – haldið í fangabúðum og sendir í gasklefa til slátrunar. Í aðdragandanum voru þeir látnir gjalda kynþáttar síns og trúar, sviptir eignum sínum og öllum mannréttindum. Gyðingagettóin, þar sem gyðingar voru lokaðir inni, aðgreindir frá öðrum manneskjum, niðurlægðir og kúgaðir á alla lund eru okkur flestum ofarlega í huga og mega aldrei gleymast. Eftir að nasisminn hafði verið brotinn á bak aftur spurðu menn hvernig þetta hafi getað gerst. Spurt var: Hvers vegna sagði enginn neitt? Vissulega andæfðu margir og hefði verið nær að spyrja, hvers vegna andmæltu ekki allir? Þessi spurning brennur á vörum þeirra sem fara nú með opin augun um Palestínu. ...

7. Janúar 2005

RÆNDUR LÍFINU – EN ÆRUNNI EKKI


Dauðsjúkur að koma heim eftir rúm tuttugu ár í fangelsi.
 
... Því má segja með nokkrum sanni að þessi 47 ára gamli Sýrlendingur hafi verið sviptur lífinu í tvennum skilningi, þeim hluta ævinnar, sem menn eru þrekmestir og síðan möguleikanum að fá læknisaðstoð í tæka tíð – annað hvort til að læknast af sjúkdómi sínum eða skjóta banvænum áhrifum hans á frest. En ærunni var Hayl Abo Zed ekki sviptur. Það vottuðu þúsundir bæjarbúa í heimabæ hans, Majdal-Shams, 10 þúsund manna bæjar hátt í Golanhæðum. Þorri bæjarbúa fagnaði heimkomu hans af ákafa og innilegheitum. Svo tilfinningaþrungin var þessu stund að hún gat engan mann látið ósnortinn. Það voru ekki einvörðungu ...

6. Janúar 2005

GETTÓ Í PALESTÍNU


Þorpið Qalqiliya er í Palestínu, eða hvað? Að nafninu til er þetta rétt. Í reynd er þorpið meira og meira að líkjast gettói. Qalqiliya er verið að umlykja rafmagnsgirðingum og múr, hinum illræmda kynþáttamúr. Til stendur að þorpið eða gettóið verði opið þrisvar á dag í innan við klukkutíma í hvert skipti! Qalqiliya var kröftugt samfélag sem þjónaði sveitunum umhverfis. Sú þjónusta er nú smám saman að veslast upp. Sveitafólkinu er gert ómögulegt að komast leiðar sinnar með vörur á markaðinn í bænum eða sækja þangað þjónustu. Jafnvel sjúkrabíl með konu í barnsnauð er vísað frá varðhliðunum utan opnunartíma ...

5. Janúar 2005

SÖGULEGAR KOSNINGAR Í PALESTÍNU


Kennarar í höfuðstöðvum verkalýðshreyfingarinnar í Nablus vinna að undirbúningi forsetakosninganna.

Forsetakosningarnar í Palestínu á sunnudag þykja sögulegar fyrir margra hluta sakir. Mikilvægasta ástæðan er sú að með kosningunum er verið að leggja einn af hornsteinum að lýðræðisuppbyggingunni í landinu. Þegar Yasser Arafat var kosinn forseti í kosningum árið 1996 var hann kjörinn með 87% atkvæða. Þá var lítil sem engin andstaða gegn honum. Menn greiddu honum atkvæði til að styðja mann sem orðinn var sameiningartákn frelsisbaráttunnar. Öðru máli gegnir nú. Starfandi forseti og forsætisráðaherra undir Arafat,  Mahmoud Abbas nýtur þess vissulega að vera arftaki Arafats sem leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna, PLO. Hann nýtur þess í tvennum skilningi ...

4. Janúar 2005

PALESTÍNA: "VIÐ VILJUM RÉTTLÁTAN FRIÐ"


Í Nablus hafa 700 íbúðarhús verið lögð í rúst og 4000 heimili verið stórskemmd. Á myndinni eru ásamt undirrituðum, Borgþór Kjærnested og Eiríkur Jónsson fyrir framan húsarústir í miðbæ Nablus

... Ástandið á herteknu svæðunum er vægast sagt slæmt. Á svæðum Palestínumanna er allt í hers höndum í bókstaflegum skilningi og eru það hendur ísraelska hersins sem hér ráða öllu. Okkur er sagt að nú í aðdraganda kosninganna hafi heldur dregið úr niðurlægingunni sem Palestínumenn eru daglega beittir á eftirlitsstöðvum ísraelska hersins ... Hins vegar er ljóst að smásmugulega úthugsuð grimmd og mannfyrirlitning finnur sér jafnan einhvern farveg. Þegar við vorum á leið út úr Jerúsalem á mánudagsmorguninn í grennd við kynþáttamúrinn illræmda virtust tveir kostir blasa við ...

2. Janúar 2005

MENNINGARHÁTÍÐ MARKÚSAR ARNAR

Áramótaávörpin, skaupið og annað hafa dunið yfir okkur þessi áramót eins og önnur. Sumt prýðilegt, annað ágætt, enn annað lakara og sumt ekki upp á marga fiska. Mér þykir Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri RÚV, eiga vinninginn þessi áramót. Hann hefur fundið aldeilis frábæra formúlu fyrir sitt framlag og framkvæmir hana mjög vel. Sennilega er hlutskipti Markúsar Arnar erfiðast allra áramótamanna. Hann kemur á skjáinn

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Allar greinar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta