Beint á leiðarkerfi vefsins

31. Desember 2004

HVERNIG Á AÐ LEIÐRÉTTA MISRÉTTIÐ?

Sannast sagna verð ég hugsi við ýmis skrif sem nú eru að birtast um lífeyrismál. Fyrst staldraði ég við nýlegan leiðara í blaði Verslunarmannafélags Reykjavíkur,  síðan við pistil sem birtist á vefriti Framsóknarflokksins. Þá verð ég hugsi yfir heimsókn blaðamanns frá ... Við þessa aðila segi ég, talið hreint út og vífilengjulaust:  Eruð þið að krefjast þess að lífeyrisréttur sjúkraliða, lögreglumanna, strætisvagnastjóra, skrifstofufólks, tollvarða, læknaritara, fangavarða og fl. og fl. verði skertur – eða viljið þið sambærilegan rétt til allra? Hinu síðara er ég fylgjandi og tel ég að þar tali ég fyrir opinbera starfsmenn almennt. Eitt veit ég að innan BSRB er það viðhorf almennt ríkjandi að... 

30. Desember 2004

Þorleifur Óskarsson skifar: VOLVOINN, KJALLARAÍBÚÐIN, SKOPMYNDASAFNIÐ OG HÖRMUNGARNAR VIÐ INDLANDSHAF

Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hefur eina ferðina enn sýnt og sannað að henni verður ekki fisjað saman þegar neyðin kallar. Á dögunum tilkynnti hún um hvorki meira né minna en 5 milljóna króna framlag til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum við Indlandshaf þar sem nú er talið að um 100 þúsund manns hafi látið lífið, þar sem milljónir eru nú heimilislausar og þar sem mikilvægt er að brugðist verði skjótt við til að koma í veg fyrir smitsjúkdóma sem geta orðið tugþúsundum manna að fjörtjóni... 

30. Desember 2004

RAUSNARSKAPUR BANDARÍKJANNA - AÐ ÓGLEYMDUM HINUM VILJUGU BANDAMÖNNUM ÞEIRRA

...Ríkisstjórnin hefur lofað 5 milljónum á sama tíma og eyða á að minnsta kosti 300 milljónum í svokallaða friðargæslu, þ.e. íslenska herinn. Krafan er að Íslendingar hætti að hreinsa eftir Bandaríska herinn og verji öllum peningum sem við það sparast til hjálparsarfs vegna náttúruhamfara. Ég fagna tillögu þingflokks VG um aukin framlög til hjálparstarfs...
Rúnar Sveinbjörnsson

29. Desember 2004

KIEFER Í BÆNUM !

Mikið þykir mér alltaf átakanlegt þegar fjölmiðlarnir okkar smækka þjóðina niður í hið óendanlega með því að elta á röndum frægt fólk sem kemur hingað til lands. Heldur fannst mér lítið leggjast fyrir Ríkisútvarpið sem birti það sem eina helstu frétt í einum aðalfréttatíma sínum að leikarinn Kiefer Sutherland væri “í bænum”.  Með þessu slúðri gerist Ríkisútvarpið óþægilega fáfengilegt fyrir ...
Sunna Sara

29. Desember 2004

LESIÐ PÓLITÍSKA HUGVEKJU

Mig langar til að þakka séra Gunnari Kristjánssyni fyrir Pólitíska jólahugvekju, sem birtist hér á heimasíðunni í dálkinum Frjálsir pennar. Ég vil hvetja sem flesta til að lesa hana. Séra Gunnar, gagnstætt mörgum öðrum prestum, reynir nefnilega ekki að forða sér út úr samtímanum. Hann tekur á ...
Bjarni

29. Desember 2004

EIGUM VIÐ AÐ STYÐJA BANDARÍSKT STÓRBLAÐ?

Finnist þér ekki meira vit í að gefa peninga til hjálpar fólkinu í Írak en að styðja einhvað stórblað í USA...?
Sigurbjörn Halldórsson

29. Desember 2004

ANDSTAÐA VEX GEGN ÞJÓNUSTUTILSKIPUN ESB

 

 

...Frá því í haust hefur legið fyrir á Alþingi fyrirspurn frá VG um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við þessari tilskipun en af hálfu VG er eindregin krafa um að Íslendingar beiti sér af alefli gegn tilskipuninni eftir því sem kostur er. BSRB reið á vaðið með opinbera umræðu um tilskipunina hér á landi en stjórn bandalagsins hefur verið mjög vakandi um þetta málefni. Rúmt ár er nú liðið frá því fulltrúi BSRB í ráðgjafanefnd EFTA, Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BSRB, gerði formlega athugasemd við tilskipunina og alþjóðafulltrúi BSRB, Páll Hannesson, hefur ritað um málefnið og komið fram í fjölmiðlum og kynnt afstöðu BSRB. Hann hefur rannsakað sérstaklega áhrif alþjóðavæðingarinnar á velferðarsamfélagið og verkalýðshreyfinguna, m.a...

28. Desember 2004

HUGLEIÐING Í TILEFNI ÞJÓÐNÝTINGAR Í RÚSSLANDI

... Þrennt er umhugsunarvert við þessa frétt. Í fyrsta lagi að rússnesk yfirvöld skuli vera farin að sjá að sér og reyni nú að ná til baka stolnum þjóðareignum. Í öðru lagi að þjófarnir skuli ætla að fara fram á skaðabætur fyrir að vera sviptir ránsfeng sínum. Í þriðja lagi að “fullvalda ríki” eigi orðið erfitt um vik að framfylgja lýðræðislegum vilja. Smám saman er verið að alþjóðavæða reglur og lög. Yfirleitt er þetta framkvæmt á forsendum markaðsvæðingar og er eignarréttur þar þungamiðja; ekki eignarréttur almennings heldur einstaklinga – manna á borð við þá félaga Khodorkovskí, Berzovsky og Abramovits. “Réttur” þessara manna er nú varinn í dómshúsinu í Houston í Texas jafnvel þótt þar séu á ferðinni ...

27. Desember 2004

UM GILDI AUGLÝSINGA

Föstudaginn 24. desember birtist í Morgunblaðinu mjög athyglisverð grein eftir framkvæmdastjóra Sambands íslenskra auglýsingastofa, Ingólf Hjörleifsson. Greinin ber yfirskriftina Auglýstu skoðun þína. Tilefni greinarinnar eru þær umræður sem sprottið hafa upp vegna fyrirhugaðrar auglýsingar Þjóðarhreyfingarinnar í New York Times...Eftirminnilegt dæmi um mátt auglýsinganna eru auglýsingar BSRB í aðdraganda BSRB verkfallsins 1984. Auglýst voru í sjónvarpi kjör félagsmanna...Eitt skuggalegasta dæmi síðari tíma um misnotkun auglýsingarinnar er sú stórfenglega "lýtaaðgerð" sem framkvæmd var á Framsóknarflokknum fyrir síðustu Alþingiskosningar. Auglýsingastofu var þá falið það erfiða hlutverk ...

24. Desember 2004

HIN HIMNESKA HJÁLP

Í austri var maður sem karlmönnum kenndi að hlýða
og konurnar lét hann fá festu sem engu var lík
hann ógnaði fólki og svo var hann stöðugt að stríða,
hann stærði sig jafnan af því hversu þjóð hans var rík.
En skósveinar auðvaldsins sögðu hann þjáningu þyngja
að þar færi maður með sprengju og heimtaði blóð.
Og heimurinn heyrði svo vopnin í vindinum syngja:
-Við erum hér til að hjálpa þér heiðingjaþjóð.
Kristján Hreinsson, skáld

23. Desember 2004

Allt í góðum gír við Kárahnjúka - segir Landsvirkjun

 
...Ég fylgist daglega með síðu Landsvirkjunar af framkvæmdunum, þar er sko allt í lagi. Til dæmis 21. des. 2004, trúði ég ekki, að enn væri 13 stiga hiti í Kárahnjúkum. Ég leit á síðu Veðurstofunnar, viti menn -20C og 20metrar á sekúndu. Samkvæmt síðunni er alltaf verið að slá met. T.d.: “Borvélarnar þrjár skiluðu alls um 600 metra löngum...
Snjólfur 

23. Desember 2004

Öryggisráðið: Ekki of seint að hætta við

Birtist í Morgunpósti VG 22.12.04
...Ríkisstjórnin hefur ekki sett fram nein sannfærandi rök fyrir því að seta Íslands í Öryggisráðinu sé eftirsóknarverð. Spurningin sem verður að svara er einföld. Á hvern hátt getur Ísland látið gott af sér leiða í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna? Ef ekki er hægt að svara þessari spurningu á afgerandi og sannfærandi hátt ber að hætta þegar í stað við framboð til Öryggisráðsins og beina kröftum utanríkisþjónustunnar að öðrum verkefnum...

22. Desember 2004

BSRB nær árangri á sviði réttindamála

BSRB í samstarfi við önnur samtök starfsfólks í almannaþjónustu hefur gengið frá samkomulagi við ríki og sveitarfélög um þætti er varða réttindi vegna lífeyrismála og örorkubóta. Réttindi launafólks skipta miklu máli þegar á reynir þótt iðulega sé einblínt á samninga um kaupgjaldið í almennri umræðu. Á heimasíðu BSRB er fjallað um samninga um ofangreind efni sem gengið hefur verið frá í desember.

21. Desember 2004

EKKI Í OKKAR NAFNI

Þjóðarhreyfingin gengst nú fyrir söfnun fyrir auglýsingu í bandarísku stórblaði til að skýra hvernig á því stóð að Íslendingar höfnuðu á lista hinna viljugu eða vígfúsu ríkja sem studdu Bandaríkjastjórn til innrásar í Írak (ríkisstjórnin vill helst nota hugtakið staðfastur sem þýðingu á enska hugtakinu willing sem er alrangt; viljugur eða vígfús í þessu samhengi er nær lagi). Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar róa nú að því öllum árum að ófrægja aðstandendur þessa framtaks. Síðan er hinu náttúrlega haldið á loft að ekki megi tala illa um þjóðina í útlöndum: Að út á við þurfum við að standa saman. Almennt virða Íslendingar þessa grunnreglu. Það eru hins vegar forsvarsmenn þjóðarinnar, þeir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra  og Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sem hafa brotið hana með því að ...

21. Desember 2004

Friðargæslan í Kabúl: Göfugt starf eða hreinsunardeild Bandaríkjahers?

...Í umfjöllun New York Times er rætt við Stefán Pálsson, formann Herstöðvaandstæðinga, sem segir eldri kynslóðina á Íslandi hafa verið stolta yfir því að íslendingar hefðu ekki her og brygði nú í brún við að sjá vopnaða Íslendinga á erlendri grundu. Þá er rætt við Illuga Gunnarsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra, sem segir af og frá að hinar vopnuðu sveitir séu hermenn og Einar K. Guðfinnsson, formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sem segir Íslendinga vinna "göfugt starf"  við uppbyggingu í Afganistan eftir að "hryðjuverkamönnum" hafi verið steypt þar af stóli...Eflaust þykir ... formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins athæfi Bandaríkjamanna í Írak vera sérlega "göfugt" eins og honum reyndar þykir um flestar gjörðir Bush og félaga...  

19. Desember 2004

Séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum skrifar: Pólitísk jólahugvekja

...Jólaguðspjallið er einföld saga – en innihaldsrík. Á yfirborðinu er allt friðsælt og fagurt en lesandinn þarf ekki að velkjast lengi í vafa um að þar er þungur undirstraumur. Það er hvorki jólasnjór né hækkandi sól, sem helgisögn Lúkasar snýst um...Þessa dagana les ég í nýútkominni bók vestanhafs. Fréttamaðurinn sem skrifar bókina, sem heitir Fall Bagdadborgar, er staddur í sjúkrahúsi í Bagdad löngu eftir að forseti Bandaríkjanna hafði lýst því yfir að stríðinu væri lokið. Tugir þúsunda óbreyttra borgara í Írak hafa eftir það látið lífið og særst í átökum. Blaðamaðurinn, Jon Lee Anderson, lýsir því sem fyrir augu ber þennan daginn. Hann horfir á lítið barn limlest og látið á sjúkrahúsinu. Lýsingin er í hrópandi mótsögn við yfirlýstan mannúðlegan tilgang stríðsins. Orðrétt segir...

19. Desember 2004

Þegar trúarbrögðin kallast á við samtíðina

Pólitísk jólahugvekja er titill greinar eftir séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum Kjós, sem birtist hér á heimasíðunni í dálkinum Frjálsir pennar. Greinin er í senn trúarleg og pólitísk eins og titillinn ber með sér. Séra Gunnar vill vekja okkur til umhugsunar og ábyrgðar, ekki aðeins kristna menn heldur alla menn ...

19. Desember 2004

Kínverskir þrælar?

...Ég var svo lánsamur þegar stóriðjuævintýrinu 1968 lauk og atvinnuleysið skall yfir þá var nóg vinna í Evrópu og ég ungur rafvirki greip tækifærið og fór til Hamborgar í skipasmiðar.  Í minni minningu voru Portúgalar sérlegar harðir karlar, sem gjarnan unnu erfiðustu störfin. Ástæða þessara pælinga  er að fréttinni fylgdi að Kínverjar þessir væru sérlega harðir og hefðu reynst vel í Gula gljúfri ef ég man rétt...
Rúnar

18. Desember 2004

Hvar er litli drengurinn?

Frá því að nýju raforkulögin birtust fyrst, verður mér ávallt hugsað til ævintýrsins um Nýju fötin keisarans. Ríkisstjórnin með Halldór sem keisara, hirðin meiri hlutinn á Alþingi, klæðskerarnir lögfræðinga- og verkfræðingahjörðin hér og  í ESB. Alþýðan erum við, en hvar er litli drengurinn? Höfum við kannski ekki lengur kjark til að hlusta á börnin.
Runki frá Snotru 

18. Desember 2004

Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Birtist í Morgunblaðinu 17.12.04.
...Ástæða væri til að spyrja almennra spurninga um framtíð heilbrigðisþjónustunnar og framtíð einstakra heilbrigðisstofnana og deilda innan þeirra. Ég ætla hins vegar að þessu sinni að leyfa mér að afmarka spurningar mínar við öldrunarþjónustuna. Í ljósi nýlegra atburða sem átt hafa sér stað innan hennar vil ég beina tveimur spurningum til heilbrigðisráðherra og vænti ég þess að hann svari á opinberum vettvangi. Í fyrsta lagi...

17. Desember 2004

Hvað segja forsvarsmenn Sjáfstæðisflokksins í skatta- og heilbrigðismálum um þetta?

Fyrir réttri viku birtist merkilegt viðtal í Morgunblaðinu við dr. J. Lariviére, aðallyfjaráðgjafa hjá alþjóðadeild kanadíska heilbrigðisráðuneytisins en hér á landi sat hann fund Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Dr. J. Lariviére varaði mjög eindregið við einkavæðingu og sagði að við ættum að meta að verðleikum grunnþætti heilbrigðiskerfisins. Þeir tryggðu aðgang að opinberri heilbrigðisþjónustu. Hann bætti því við að um þetta væri nokkuð víðtæk samstaða.

16. Desember 2004

Lítilmagni leitar ásjár í útlöndum

...En viti menn, á meðan niðurstöðu EFTA dómstólsins er beðið hafa  Samtök banka og verðbréfafyrirtækja, sem stillt hafa sér upp sem lítilmagna í þessu tafli, leitað ásjár hjá kollegum í útlöndum. Okkur er sagt í fréttum að ákallinu hefði verið svarað: Evrópusamtök banka, með hvorki meira né minna en 4500 fjármála- og verðbréfafyrirtæki innanborðs, hafa ályktað í þá veru að ósanngjarnt og óeðlilegt sé að íslenskt samfélag reki Íbúðalánasjóð...

15. Desember 2004

Er verið að venja börnin við?

...Ég held að flestir geti verið sammála um að spilafíkn sé alvarlegt þjóðfélagsmein og einnig held ég að við hljótum að geta verið sammála um að  kappkosta beri að vernda börn og unglinga gagnvart þessari vá. Varla verður það gert með því að setja upp kassa á borð við þá sem er að finna í sundlaugunum í Laugardal. Í anddyrinu þar er að finna sölukassa sem líkjast spilakössum og er greinilega ætlað að höfða beint til barna. Þetta eru sölukassar eins og áður segir en sölumennskan gengur út á að börnin safni tilteknum fígúrum og ræður tilviljun ein hvað fellur í þeirra hlut hverju sinni. Markmiðið er að eignast allar fígúrurnar sem í boði eru. Þessir kassar eru merktir SÁÁ og veit ég ekki hvort Íslandsspil komi þar við sögu. Sú spurning sem upp úr stendur er hvort með þessu söluformi sé ekki  verið að venja börnin við spilakassa. Er þetta rétta leiðin til að byggja upp fólk, eins og staðhæft er á kössunum?

15. Desember 2004

DRÖG AÐ BYLTINGU

Eftirfarandi ljóð er að finna á samnefndri geislaplötu sem Kristján Hreinsson, skáld, er að senda frá sér um þessar mundir:

Af þjófunum birtast svo magnaðar myndir,
við meinum þeir finna ráð
með brosandi andlit við olíulindir
þeir árangri hafa náð.
Menn verðlauna íslenska umhverfissóða
sem arðræna þjóðarsál
og nota hér allan sinn olíugróða
í íhaldsins leyndarmál.

15. Desember 2004

Baldur Andrésson skrifar: Grýlusögur

Svo ógurlegur var Hundtyrkinn í Eyjum forðum að hann bar með sér flösku með mannsblóði blönduðu byssupúðri til að auka sér grimmd. Þá sögu sögðu fréttamenn 17.aldar, prestar og annálaskrifarar sumir. Ekki þótti verra að lýsa skrattakollum þessum hressilega! Grýlusögur fjalla um mannætu. Grýla er þó ekki persóna í öllum grýlusögum. Grýlasagan um þessi jól verður um...

14. Desember 2004

Nokkrar spurningar um múrinn, pyntingar, dráp og fílinn á NATÓ-fundinum

- Hvað hefði verið sagt ef þessi kynþáttamúr – múr sem reistur er til að skilja að tvær þjóðir, og hafa land af annarri þeirra – hefði verið í Suður-Afríku á apartheid - tímanum?
- Hvers vegna er látið viðgangast mótmælalaust að Ísrael beiti pyntingum í fangelsum? Ísrael er eina landið í heiminum þar sem pyntingar eru beinlínis heimilaðar í lögum!
Hvers vegna lagðist fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra Íslands gegn því  að bygging kynþáttamúrsins yrði kærð til Alþjóðadómstólsins, kæra sem leiddi til sakfellingar Ísraels?
- Hvers vegna fáum við ekki að heyra meira um morð og ofbeldisverk sem ísraelski herinn fremur daglega á herteknu svæðunum í Palestínu?
- Hvers vegna fáum við ekki að heyra af ofbeldi og harðræði sem palestínskir forsetaframbjóðendur eru beittir af hálfu ísraelskra yfirvalda?
- Hvers vegna skyldu íslenskir ráðamenn vera eins ósamkvæmir sjálfum sér og raun ber vitni í afstöðu til Íraks annars vegar og Ísraels hins vegar? Íraksstjórn undir stjórn Saddams Husseins hundsaði á annan tug ályktana Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og var árás á landið m.a. réttlætt í því ljósi. Ísrael hefur hundsað yfrir 40 ályktanir SÞ? Enginn talar um að gera loftárás á Tel Aviv.

14. Desember 2004

Hjörtur Hjartarson skrifar: Átta spurningar og sjö svör

Eftirfarandi spurningar  og svör lúta að væntanlegri yfirlýsingu Þjóðarhreyfingarinnar í New York Times...Til hjálparstofnana ættu allir aflögufærir að gefa. Samkvæmt frétt RÚV kostar hernaðurinn í Írak 63 milljarða króna á viku og verður bráðlega 95 milljarðar króna, ca. ein Kárahnjúkavirkjun á viku. Nafn okkar og orðspor sem vopnlausrar og friðelskandi þjóðar er líka nokkurra króna virði. - Verði afgangur af söfnunarfénu rennur hann óskertur til Rauða kross Íslands til hjálpar stríðshrjáðum borgurum í Írak...

14. Desember 2004

Er samkeppni til hækkunar jákvæð?

Í leiðara Fréttablaðsins í dag er svo að skilja að blaðið fagni samkeppni í raforkumálum! Þetta hljómar undarlega því nú kemur á daginn að fyrstu kynni neytenda af samkeppninni verður hærra raforkuverð um áramótin þegar samkeppnisfyrirkomulag Valgerðar Sverrisdóttur og félaga verður að veruleika. Ekki heyrði ég betur en iðnaðarráðherrann hefði verið varaður við því á Alþingi fyrir þinglokin, að kerfisbreytingunni fylgdi kostnaðarhækkun fyrir neytendur þótt Valgerður reyni nú að þvo hendur sínar af öllu slíku. Þetta er ekki vandaður málflutningur og svo sannarlega ekki í samræmi við ...
Helgi

13. Desember 2004

Hugrenningar í kjölfar DV leiðara

Jónas Kristjánnsson, fyrrum ritstjóri DV skrifar reglulega leiðara í DV. Skrif hans eru jafnan beitt og vekjandi. Sérstaklega umhugsunarverður þótti mér leiðari hans síðastliðinn föstudag. Þar vék hann að hræringum á lánamarkaði og hugleiddi þær grundvallarbreytingar sem orðið hefðu í samfélaginu á síðustu árum. Fjármagn sem hefði verið af skornum skammti elti nú fólk á röndum eða með orðum Jónasar þá “ráfar” það “um banka og sjóði í leit að skuldurum.” Leiðari Jónasar ber yfirskriftina “Eign eða áskrift.” Hann sýnir fram á hvernig þjóðfélagið sé að breytast að því leyti að fólk sé hætt að...

13. Desember 2004

Varðstaða verkalýðsfélaga í alþjóðamálum mikilvæg

Sannast sagna þykir mér virðingarvert hve vel BSRB er vakandi í alþjóðamálum. Ég sé á heimasíðu þinni, að formaður Póstmannafélagsins, Þuríður Einarsdóttir, er nú kominn til Japans á vegum BSRB ásamt Einari Ólafssyni, einnig frá BSRB og Gylfa Arnbjörnssyni frá ASÍ. Það er gott að BSRB einblíni ekki bara á Evrópusambandið en er þó vakandi yfir því sem þar er að gerast, sbr...
Félagi í BSRB

12. Desember 2004

Guðmundur gleður Björn

...Ég vona að Guðmundur Ólafsson komi betur undirbúinn til kennslu en hann er þegar hann sest við skrftir fyrir Morgunblaðið. Að öðrum kosti kynni einhver að láta sér detta í hug að tími væri kominn fyrir  svona háskólakennara að hverfa til annarra starfa. En þótt skrif Guðmundar misstu marks að þessu sinni, tókst honum þó eitt. Honum tókst að gleðja Björn Bjarnason. Það er náttúrlega gustukaverk í skammdeginu...

9. Desember 2004

Stórmerkilegt framtak hjá BSRB


Frá undirritun samningsins: Inga Sigurðardóttir formaður Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva, Birna Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri Framvegis, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Elín Björg Jónsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB.

BSRB og Framvegis miðstöð um símenntun, undirrituðu samning um tungumálafræðslu BSRB, í dag, fimmtudaginn 9. desember kl. 13.00. Við það tækifæri sögðust báðir samningsaðilar hugsa gott til samstarfsins. Fulltrúar Framvegis og Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva sem munu annast kennsluna utan höfuðborgarsvæðisins, að þetta væri stórmerkilegt framktak hjá BSRB.

9. Desember 2004

Um kvóta, strandsiglingar og maurasýru

...Í sambandi við kvótamálin spyr ég hvert auðlindagjaldið fari? Er ekki eðlilegast að það renni til þeirra byggða sem viðkomandi útgerðir og kvótar tilheyra? Svo var ég að komast að því að um áramótin þegar strandsiglingum verður hætt verða keyrðir 20.000 lítrar af maurasýru (notuð í rækjuvinnslu) einu sinni í viku til Siglufjarðar. Þess má geta að 25-30 lítrar eyða öllu lífi í Mývatni. Hvað er hægt að gera í þessum málum...
Finnur Sigurðsson

8. Desember 2004

Halldór Ásgrímsson neitar að axla ábyrgð!

...Ekki verður hið sama sagt um spjall þeirra Halldórs og Óðins Jónssonar fréttamanns á morgunvakt RÚV í morgun. Þar var heldur meira logn. Í rabbi þeirra var vikið að þessum málum og enn eina ferðina "fræddi" Halldór Ásgrímsson þjóðina um stöðuna í alþjóðamálum. Í Afganistan hafi tekist að brjóta hryðjuverkamenn á bak aftur, þar sé nú lýðræði í hávegum haft; í Úkraínu hins vegar væri annað uppi á teningnum, það þekkti Halldór eftir dvöl sína þar. Allt minnti þetta nokkuð á það þegar sami maður kom á sínum tíma af fundi með bandarískum ráðamönnum og sagðist hafa óyggjandi sannanir fyrir gereyðingarvopnum í Írak! Aldrei hefur hann þurft að standa skil á því hverjar þessar sannanir hafi verið. Á Alþingi hafa bæði Halldór Ásgrímsson og núverandi utanríkisráðherra, Davíð Oddsson, farið undan í flæmingi, svarað út og suður eða með skætingi þegar upplýsinga hefur verið óskað og sem kunnugt er mæta þessir forsvarsmenn þjóðarinnar núorðið aðeins í fjölmiðla með því skilyrði að...

7. Desember 2004

En hvenær koma 90% lánin?

Íbúðalánasjóður er smám saman að sækja í sig veðrið. Það er vel. Ríkisstjórnin, eða öllu heldur félagsmálaráðherra hét því að hækka íbúðalán í 90%. Menn tóku það sem svo að 65% núverandi lánshlutfall yrði hækkað upp í 90% af verði venjulegrar íbúðar. Hámarksupphæð fyrir slík húsnæðislán er núna 11,5 milljónir. Sú upphæð er 65% af 17,7 milljónum. Það er algengt verð fyrir íbúðarhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu. Ef hækka á 11,5 milljónir upp í 90% af 17,7 milljónum – í samræmi við fyrirheit félagsmálaráðherra - yrði að heimila hækkun lána upp í tæpar 16 milljónir. Það var hins vegar ekki gert. Hámarkslán mega aðeins fara í 14,9 milljónir. Ríkisstjórnin hefur því enn ekki staðið við fyrirheit sín um 90% lán. 14,9 milljón króna hámarkslán sem nú eru í kortunum eru aðeins 84% af 17,7 milljónum, því viðmiðunarmarki sem nú er viðurkennt. 84% lán eru þannig orðin að veruleika, en ekki 90% lán. Eðlilegt er að spurt sé, hvenær koma 90% lánin?

7. Desember 2004

Forsætisráðherra sagði ósatt í Kastljósi

Forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, laug í Kastljósi í gærkvöldi. Hann sagði þar orðrétt, "við vorum beðin um...að styðja það að Saddam Hussein væri komið frá á grundvelli ályktunar Sameinuðu þjóðanna nr. 1441". Síðar í viðtalinu endurtók hann að "við studdum það að koma Saddam Hussein frá" og vísaði aftur til margra (ótilgreindra) ályktana Sameinuðu þjóðanna sem heimild fyrir slíkri aðgerð. Halldór sagði ósatt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gerði aldrei neina samþykkt um að...
Elías Davíðsson

7. Desember 2004

Hver skyldi vera tímaskekkjan Bjarni Ármannsson?

...Vill hann þá að skattborgarinn styrki dreifbýlið? Hvaða tímaskekkju er hann að tala um eiginlega? Jafnvel þótt Íbúðalánasjóður væri með niðurgreidda vexti vegna ákvörðunar samfélagsins þá væri það engin tímaskekkja að mínu mati. En svo er nú einu sinni ekki. Staðreyndin er sú að hagsmunagæslumenn fjármagnsaflanna eru tímaskekkjan í okkar samfélagi. Þeir vilja stefna samfélaginu aftur til fortíðar ...
Hafsteinn Orrason

6. Desember 2004

Morgunblaðið á lof skilið fyrir umfjöllun um spilafíkn

Allt frá því á laugardag hefur verið mjög athyglisverð umfjöllun í Morgunblaðinu um spilafíkn. Á laugardag birti blaðið bréf frá Ólafi M. Ólafssyni þar sem hann auglýsir eftir lögfræðingi til að taka mál sitt til Evrópudómstólsins. Ólafur tapaði öllum eigum sínu vegna þess að náinn venslamaður, sem hafði aðgang að bókhaldi hans, var haldinn spilafíkn. Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins var ítarlegt viðtal Skapta Hallgrímssonar við Ólaf ásamt ...

6. Desember 2004

Fulltrúar Íslands á heimsráðstefnu verkalýðsins í Japan

Þessa dagana fer fram í Miyazaki í Japan heimsráðstefna Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU). Á þinginu eru þrír fulltrúar frá Íslandi: Þuríður Einarsdóttir og Einar Ólafssson frá BSRB og Gylfi Arnbjörnsson frá ASÍ. Ástæða er til að vekja athygli lesenda síðunnar á fréttum af þinginu en þegar hefur birst ...

6. Desember 2004

Sátt við VG

Ég er mjög sátt við stefnu VG í skattamálum sem öðru. Stundum verð ég agndofa að fylgjast með Samfylkingunni í skattaumræðunni. Hún virðist vilja gera allt í senn, lækka skatta og auka útgjöldin! Er þetta trúverðugt? Öllum er lofað öllu fögru. Þá vil ég heldur staðfestu VG sem vill dreifa skattbyrðunum öðru vísi en nú er gert og breyta forgangsröðun við nýtingu skattfjárins. En flokkurinn neitar - og það finnst mér gott -  að skrifa upp á...
Sunna Sara

2. Desember 2004

Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu - Public Services International

Undanfarna daga hef ég setið stjórnarfund í Alþjóðasambandi starfsfólks í almannaþjónustu, Public Services International (PSI). Samtökin taka til allra heimsálfa og er geysilega fróðlegt að heyra frásagnir og lesa skýrslur frá öllum hornum heimsins. Engin samtök í heiminum, leyfi ég mér að fullyrða, er eins kröftugt mótvægi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Alþjóðabankann, Alþjóðaviðskiptastofnunina og aðrar valdastofnanir og valdatæki alþjóðafjármagnsins og einmitt þessi samtök. Yfir stöðuna í þessu samskiptum var ...

2. Desember 2004

Guantanomó - "víti á jörðu" - hverjir mótmæltu?

Eftir viðtal við breskan blaðamann í Ríkissjónvarpinu er ég að reyna að rifja það upp hverir studdu innrásina í Afganistan, sem gat af sér “Guantanamó-helvítið á jörð”. Voru það ekki allir flokkar að undanskildum Vinstri grænum...
Runki frá Snotru

1. Desember 2004

Er 13. janúar táknrænn fyrir vinnubrögð Evrópusambandsins?

Eitt er víst. Evrópuþingið hefur reynst fullkomlega vanmáttugt í viðureign sinni við fulltrúa peningahyggjunnar, sem ráða nú lögum og lofum innan stjórnarnefndar ESB. Gagnrýnin andstaða hefur hins vegar komið frá verkalýðshreyfingunni í Evrópu. Hún hefur í fyrsta skipti í langan tíma sýnt að enn rennur í henni blóðið. Hér á Íslandi hefur BSRB staðið rækilega vaktina, örvað til umræðu og upplýst fólk um málið. Í ráðgjafanefnd EFTA hefur fulltrúi BSRB haft uppi alvarlega fyrirvara og verið einn um bókun hvað þetta varðar.
Fyrir Íslendinga er þetta ekki síður alvarlegt mál en Evrópusambandsþjóðirnar því þær ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Allar greinar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta