30. Janúar 2004
Sem betur fer er til á Íslandi fólk sem á í skrokknum á sér blóð sem rennur; fólk sem hefur ábyrgðartilfinningu og fylgir henni eftir. Slíkur maður er Árni Guðmundsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi í Hafnarfirði. Hann hefur kært vesaldóminn í Ölgerð Egils Skallagrímssonar fyrir að ríða á vaðið til að reyna að hnekkja félagslegri viðleitni þjóðarinnar til að berjast gegn áfengisvánni með því að sporna gegn áfengisauglýsingum...
30. Janúar 2004
Óskandi væri að Ríkisútvarpið endurskoðaði afstöðu sína til kostunar dagskrárliða. Auglýsingar eiga að heita auglýsingar og birtast undir þeim formerkjum í auglýsingatímum sjónvarps og útvarps. Kostun heitir það hins vegar þegar auglýsandanum er leyft að líma sig við einstaka dagskrárliði með yfirlýsingum um að viðkomandi dagskrá sé þeim að þakka: Í kvöld var okkur sagt að ...
29. Janúar 2004
Birtist í Fréttablaðinu 28.01.2004
Allt var þetta fyrirsjáanlegt þegar ákvörðun var tekin um stóriðjframkvæmdirnar við Kárahnjúka fyrir rúmu ári. Það sem ekki var fyrirsjáanlegt var að fyrstu fórnarlömdin yrðu hjúkrunarfólk á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og blórabögglar síðan fólk með skerta starfsorku sem ekki á annars kost en fá stuðning úr almannatryggingakerfinu...
28. Janúar 2004

Á þessa leið mælti
Haraldur Steinþórsson, talsmaður
Félags hjartasjúklinga á baráttufundi í Austurbæ í gær. Þessi gamli baráttujaxl, fyrrverandi varaformaður
BSRB til margra ára, vandaði ríkisstjórninni ekki kveðjurnar í frábærri tölu sinni á fundinum en honum var stefnt gegn niðurskurði ríkisstjórnarinnar á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi. Haraldur sagði að þjóðin stæði einhuga að baki heilbrigðisþjónustunni, það hefði margoft sýnt sig. Hin fjölmennu samtök sjúklinga í landinu hefðu einnig sýnt í verki samstöðu um að stuðla að uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar.
Ríkisstjórnin gengi nú gegn þjóðarviljanum og mætti segja með sanni að með aðgerðum sínum væri hún að innleiða dauðarefsingu...26. Janúar 2004
Nú er komið á daginn að ekki verður hægt að ná saman fundi í Efnahags- og viðskiptanefnd þingsins um málefni sparisjóðanna fyrir þingbyrjun vegna deilna um hver sé hæfur og hver vanhæfur til að fjalla um málið. Í hnotskurn snýst málið um að formaður nefndarinnar Pétur H. Blöndal er sjálfur...
24. Janúar 2004
Í Morgunblaðinu í gær er fjallað um fund sem Samfylkingin efndi til í umboði Alþýðuflokks Reykjavíkur (sem ég hélt að hefði verið lagður til hvílu) um "eftirlaunafrumvarpið" margfræga þar sem Alþingi festi í lög umframréttiindi ráðherrum til handa sérstaklega og þingmönnum almennt einnig. Enginn í þingflokki VG studdi þetta frumvarp þegar það var afgreitt sem lög. Það verður hins vegar ekki sagt um þingflokk Samfylkingarinnar. Þar studdu...
23. Janúar 2004
Nýlokið er í Indlandi World Social Forum. Einar Ólafsson rithöfundur fjallar um þessa samkomu á heimasíðu sinni og er ástæða til að vekja athygli á umfjöllun hans og reyndar einnig heimsíðu Einars sem er einkar athygliverð. Netslóðina er að finna hér að neðan. Einar Ólafsson segir þar meðal annars um World Social forum: "Þessi ráðstefna er raunar engin ein ráðstefna heldur mörg hundruð ráðstefnur, fundir og samkomur til að ræða þann vanda sem...
18. Janúar 2004
Sá sem mælir er breski rithöfundurinn John Mortimer í skemmtilegu viðtali sem Jónas Knútsson tók við hann og birtist í helgarblaði Morgunblaðsins. Viðtalið vakti athygli mína af tveimur sökum. Það gefur skemmtilega innsýn í hugarheim þessa aldraða og lífsreynda Breta. Að hinu leytinu er viðtalið skemmtilegt og fjörugt og er það að sjálfsögðu Mortimer að þakka en ekki spilla stórskemmtilegar – stundum svolítið ögrandi – spurningar Jónasar Knútssonar. Varðandi ummæli Mortimers um Tony Blair þá...
17. Janúar 2004
Pétur Blöndal segir í fjölmiðlum að hagnaður sinn af sölu SPRON myndi verða um tvær milljónir. Það séu ekki peningar sem ríði neinn baggamun í sínu bókhaldi og það væri þá staðfesting á hæfni hans til að fjalla um og jafnvel að stjórna umfjöllun í þingnefnd um tilgreint mál á grundvelli málefnis en ekki hagsmuna. Hann bætir við að allar ákvarðanir á Alþingi varði einhvern, hagsmunatengsl séu alltaf einhver. Þjóðarmeinsemdin sé...
bjarni
16. Janúar 2004
Höft og helsi koma að sjálfsögðu við kvikuna á öllum ærlegum skáldum; því hvaða andans jöfur er svo aumur að hann vilji ekki fá frið til að skapa og koma svo verkum sínum á framfæri? Í þessum kringumstæðum hefur Jón í Baugsnesi nú þegar ort sitt fyrsta lagafrumvarp, eins og frá var sagt í ...
Eiríkur frá Hannesi
16. Janúar 2004
Hjá framsóknarmönnum skiptast á skin og skúrir. Tveir mjög hamingjusamir framsóknarmenn hafa birst á sjónvarpsskjánum á undanförnum dögum. Annar er formaður flokksins, Halldór Ásgrímsson, sem sagðist vera "stoltur og glaður" yfir efnasprengjufundi í Írak, enda "hefði hann alltaf vitað" að gereyðingarvopn væri að finna í landinu. Hinn hamingjusami framsóknarmaðurinn er Jónína Bjartmarz. Ég sá ekki betur en ráðherraglampi væri í augum hennar...
15. Janúar 2004

Fulltrúar stærstu heildarsamtaka launafólks í landinu komu á fund
trúnaðarmanna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í dag til að mótmæla stórfelldum niðurskurði á sjúkrahúsinu, sem mun verða þess valdandi að hátt í 300 einstaklingar munu missa vinnuna. Niðurskurðurinn mun skerða þjónustu verulega.
Einar Oddsson, formaður
Starfsmannaráðs LSH stýrði fundinum en...
15. Janúar 2004
Þetta er mikill fákeppnismarkaður þar sem lífeyrissjóðirnir eru alltof stórir og virka bara sem hækja örfárra ákafamenn sem falið er vald sem engum er hollt . Víst er að skylda lífeyrissjóðanna að fjárfesta hlutfall tekna sinna á íslenskum hlutabréfamarkaði er að verða þjóðarmeinsemd því að í skjóli þess þrífst mikil spilling sem birtist í ofmetnum fyrirtækjum á mjög vanþróuðum hlutabréfamarkaði. Glaðst hefur verið yfir góðri ávöxtun lífeyrissjóðanna ...
Bjarni
13. Janúar 2004
Ögmundur Jónasson vekur hér á síðu sinni athygli á djúpgrunduðum vangaveltum Hannesar G. Sigurðssonar aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þess efnis m.a., að fjölgun opinberra starfsmanna dragi óhjákvæmilega úr hagvexti. En eins og Ögmundur sýnir fram á stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi Hannesar enda verður ekki betur séð en aðstoðarforstjórinn sé að minnsta kosti...
Þjóðólfur
12. Janúar 2004
Það koma út margar bækur ár hvert, góðu heilli. Sumar eru læsilegar, aðrar miður eins og gengur. Margir nota frístundirnar til samningar slíkra verka, aðrir gera það í vinnutímanum á kostnað almennings. Höfundur umræddrar bókar um Halldór Laxnes hefur sagt að hann hafi ritað bókina á einu og hálfu ári, vonandi í starfsleyfi. Miðað við þessi afköst mun hann líklega...
11. Janúar 2004
Og mikið mundi það nú létta byrðarnar á baki forsætisráðherrans ef ýmsir helstu viðskiptajöfrar landsins tækju þessu tilboði Háskólans. Námskeiðið kostar að vísu 16.100 krónur pr. mann en gæti...
Jón Bisness
11. Janúar 2004
Það var hins vegar ekki í þessu samhengi sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráherra Íslands brást við þessum vopnafundi. "Ég tel að hér sé um að ræða heimsatburð", segir hann við Morgunblaðið og bætir við, "Ég er stoltur og þakklátur íslensku sérfæðingunum fyrir þeirra stóra þátt í þessu máli." Í útvarpsfréttum í gærkvöld sagði Halldór að hann hefði alltaf vitað að gereyðingarvopn væru í Írak. Og nú væri sönnunin komin. Auðvitað kemst maður við yfir barnslegri gleði þeirra manna sem studdu árásina á Írak...
10. Janúar 2004
Talsmenn atvinnurekenda fara nú mikinn. Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins benda á, að frá 1997 til 2002, hafi starfandi fólki á Íslandi fjölgað í heild um tæp 15 þúsund eða 10,4%. En viti menn, aðeins hafi fjölgað um 8% í einkageiranum en um rúm 17% hjá hinu opinbera. "Tímabilið einkennist þannig af örri fjölgun opinberra starfsmanna og vaxandi hlutdeild hins opinbera á vinnumarkaðnum." Þetta þykja þeim SA mönnum illar fréttir og segja mikla vá fyrir dyrum ef þessi þróun verði ekki stöðvuð hið fyrsta. Eftir SA var haft í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að mikil "fjölgun opinberra starfsmanna hér á landi (væri) verulegt áhyggjuefni enda dragi slík þróun úr hagvexti." Og orðrétt sagði Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins...
9. Janúar 2004
Það er merkilegt hve áhugasamir ýmsir aðilar innan Samfylkingarinnar virðist vera um einkavæðingu. Í fréttum í kvöld birtist formaður svokallaðrar Framtíðarnefndar flokksins til að lýsa þeirri skoðun sinni að ekki beri nauðsyn til að opinberir starfsmenn sinni almannaþjónustunni. Þetta er hárrétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem gegnir formennsku í framangreindri nefnd. Það er vissulega hægt að einkavæða þessa þjónustu og fela hana fyrirtækjum á markaði. En hvaða þjónustu telur hún ...
8. Janúar 2004
Birtist í Fréttablaðinu 07.01.2004
Ráðamenn sem tala á þann drambsama hátt til þjóðarinnar, sem Davíð Oddsson gerði á gamlársdag, verða að fá orð í eyra. Þeir þurfa aðhald. Þeir þurfa hreinlega á leiðsögn að halda. Í því efni má þjóðin ekki bregðast þeim...
7. Janúar 2004
Læknafélg Íslands kórónar nú allt með því að segja að beini TR sjúklingum inn í almennu heilsugæsluna eða á sjúkrahús þá sé það að öllum líkindum lögbrot. Og lögin sem Læknafélagið segir brotin eru samkeppnislög. Talsmenn sérfræðilækna skyldu fara varlega í að tala um blautar tuskur. Almennt eru læknar samfélagslega sinnuð og ábyrg stétt. Hún má ekki láta bisnissmenn úr sínum röðum taka völdin og stýra förinní kjarabaráttunni...
6. Janúar 2004
Ég vil byrja á að hrósa þér fyrir að taka strax afstöðu gegn hinu umdeilda frumvarpi um eftirlaun ráðherra og hækkun til formanna þingflokka stjórnarandstöðu. Ég get ekki skilið af hverju þingmenn þurfa betri eftirlaun en aðrir í þjóðfélaginu, eða þeir þurfi að vera betur tryggðir heldur en aðrir...
Sigurbjörn Halldórsson.
4. Janúar 2004
Í ávarp forseta Íslands við áramót lagði hann mikla áherslu á hlutverk Íslendinga í breyttum heimi. Á sviði viðskipta væri landslag breytt og tækifæri mikil. Fram kom í ávarpinu að íslenskir athafnamenn eigi kost á stjarnfræðilegum gróða ef rétt væri á málum haldið. Mikilvægt væri að draga ekki úr frelsi til athafna með óþarfa lagasetningu sem hefti starfsemi...
Bjarni
4. Janúar 2004
Ólafur Ragnar Grímsson hefur sagt margt ágætt í ávarpsorðum sínum til þjóðarinnar á nýjársdag á liðnum árum og vissulega var sitthvað ágætt í ávarpinu að þessu sinni. En það á ekki við um meginstefið, nefnilega, að við megum ekki vera vond við ríka fólkið, því það þurfi svigrúm til að "athafna sig". Þessi áskorun var sett í búning sanngirninnar! Á öðru var þörf frá Bessastöðum nú, í samfélagi vaxandi misskiptingar....Davíð Oddsson var ánægður með sig og sína í sínu ávarpi. Hér á landi væri allt í stakasta lagi...En viti menn, undir miðnættið á gamlárskvöld birtist síðan Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri með aldeilis bráðgóða hugvekju, þátt um Sigvalda Kaldalóns tónskáldið mikla. Það var einstaklega vel til fundið af Markúsi Erni að flétta saman lífshlaup og list Sigvalda sinni hugvekju og á útvarpsstjóri...