Beint á leiðarkerfi vefsins

31. Desember 2004

HVERNIG Á AÐ LEIÐRÉTTA MISRÉTTIÐ?

Sannast sagna verð ég hugsi við ýmis skrif sem nú eru að birtast um lífeyrismál. Fyrst staldraði ég við nýlegan leiðara í blaði Verslunarmannafélags Reykjavíkur,  síðan við pistil sem birtist á vefriti Framsóknarflokksins. Þá verð ég hugsi yfir heimsókn blaðamanns frá ... Við þessa aðila segi ég, talið hreint út og vífilengjulaust:  Eruð þið að krefjast þess að lífeyrisréttur sjúkraliða, lögreglumanna, strætisvagnastjóra, skrifstofufólks, tollvarða, læknaritara, fangavarða og fl. og fl. verði skertur – eða viljið þið sambærilegan rétt til allra? Hinu síðara er ég fylgjandi og tel ég að þar tali ég fyrir opinbera starfsmenn almennt. Eitt veit ég að innan BSRB er það viðhorf almennt ríkjandi að... 

30. Desember 2004

Þorleifur Óskarsson skifar: VOLVOINN, KJALLARAÍBÚÐIN, SKOPMYNDASAFNIÐ OG HÖRMUNGARNAR VIÐ INDLANDSHAF

Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hefur eina ferðina enn sýnt og sannað að henni verður ekki fisjað saman þegar neyðin kallar. Á dögunum tilkynnti hún um hvorki meira né minna en 5 milljóna króna framlag til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum við Indlandshaf þar sem nú er talið að um 100 þúsund manns hafi látið lífið, þar sem milljónir eru nú heimilislausar og þar sem mikilvægt er að brugðist verði skjótt við til að koma í veg fyrir smitsjúkdóma sem geta orðið tugþúsundum manna að fjörtjóni... 

30. Desember 2004

RAUSNARSKAPUR BANDARÍKJANNA - AÐ ÓGLEYMDUM HINUM VILJUGU BANDAMÖNNUM ÞEIRRA

...Ríkisstjórnin hefur lofað 5 milljónum á sama tíma og eyða á að minnsta kosti 300 milljónum í svokallaða friðargæslu, þ.e. íslenska herinn. Krafan er að Íslendingar hætti að hreinsa eftir Bandaríska herinn og verji öllum peningum sem við það sparast til hjálparsarfs vegna náttúruhamfara. Ég fagna tillögu þingflokks VG um aukin framlög til hjálparstarfs...
Rúnar Sveinbjörnsson

29. Desember 2004

KIEFER Í BÆNUM !

Mikið þykir mér alltaf átakanlegt þegar fjölmiðlarnir okkar smækka þjóðina niður í hið óendanlega með því að elta á röndum frægt fólk sem kemur hingað til lands. Heldur fannst mér lítið leggjast fyrir Ríkisútvarpið sem birti það sem eina helstu frétt í einum aðalfréttatíma sínum að leikarinn Kiefer Sutherland væri “í bænum”.  Með þessu slúðri gerist Ríkisútvarpið óþægilega fáfengilegt fyrir ...
Sunna Sara

29. Desember 2004

LESIÐ PÓLITÍSKA HUGVEKJU

Mig langar til að þakka séra Gunnari Kristjánssyni fyrir Pólitíska jólahugvekju, sem birtist hér á heimasíðunni í dálkinum Frjálsir pennar. Ég vil hvetja sem flesta til að lesa hana. Séra Gunnar, gagnstætt mörgum öðrum prestum, reynir nefnilega ekki að forða sér út úr samtímanum. Hann tekur á ...
Bjarni

29. Desember 2004

EIGUM VIÐ AÐ STYÐJA BANDARÍSKT STÓRBLAÐ?

Finnist þér ekki meira vit í að gefa peninga til hjálpar fólkinu í Írak en að styðja einhvað stórblað í USA...?
Sigurbjörn Halldórsson

29. Desember 2004

ANDSTAÐA VEX GEGN ÞJÓNUSTUTILSKIPUN ESB

 

 

...Frá því í haust hefur legið fyrir á Alþingi fyrirspurn frá VG um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við þessari tilskipun en af hálfu VG er eindregin krafa um að Íslendingar beiti sér af alefli gegn tilskipuninni eftir því sem kostur er. BSRB reið á vaðið með opinbera umræðu um tilskipunina hér á landi en stjórn bandalagsins hefur verið mjög vakandi um þetta málefni. Rúmt ár er nú liðið frá því fulltrúi BSRB í ráðgjafanefnd EFTA, Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BSRB, gerði formlega athugasemd við tilskipunina og alþjóðafulltrúi BSRB, Páll Hannesson, hefur ritað um málefnið og komið fram í fjölmiðlum og kynnt afstöðu BSRB. Hann hefur rannsakað sérstaklega áhrif alþjóðavæðingarinnar á velferðarsamfélagið og verkalýðshreyfinguna, m.a...

28. Desember 2004

HUGLEIÐING Í TILEFNI ÞJÓÐNÝTINGAR Í RÚSSLANDI

... Þrennt er umhugsunarvert við þessa frétt. Í fyrsta lagi að rússnesk yfirvöld skuli vera farin að sjá að sér og reyni nú að ná til baka stolnum þjóðareignum. Í öðru lagi að þjófarnir skuli ætla að fara fram á skaðabætur fyrir að vera sviptir ránsfeng sínum. Í þriðja lagi að “fullvalda ríki” eigi orðið erfitt um vik að framfylgja lýðræðislegum vilja. Smám saman er verið að alþjóðavæða reglur og lög. Yfirleitt er þetta framkvæmt á forsendum markaðsvæðingar og er eignarréttur þar þungamiðja; ekki eignarréttur almennings heldur einstaklinga – manna á borð við þá félaga Khodorkovskí, Berzovsky og Abramovits. “Réttur” þessara manna er nú varinn í dómshúsinu í Houston í Texas jafnvel þótt þar séu á ferðinni ...

27. Desember 2004

UM GILDI AUGLÝSINGA

Föstudaginn 24. desember birtist í Morgunblaðinu mjög athyglisverð grein eftir framkvæmdastjóra Sambands íslenskra auglýsingastofa, Ingólf Hjörleifsson. Greinin ber yfirskriftina Auglýstu skoðun þína. Tilefni greinarinnar eru þær umræður sem sprottið hafa upp vegna fyrirhugaðrar auglýsingar Þjóðarhreyfingarinnar í New York Times...Eftirminnilegt dæmi um mátt auglýsinganna eru auglýsingar BSRB í aðdraganda BSRB verkfallsins 1984. Auglýst voru í sjónvarpi kjör félagsmanna...Eitt skuggalegasta dæmi síðari tíma um misnotkun auglýsingarinnar er sú stórfenglega "lýtaaðgerð" sem framkvæmd var á Framsóknarflokknum fyrir síðustu Alþingiskosningar. Auglýsingastofu var þá falið það erfiða hlutverk ...

24. Desember 2004

HIN HIMNESKA HJÁLP

Í austri var maður sem karlmönnum kenndi að hlýða
og konurnar lét hann fá festu sem engu var lík
hann ógnaði fólki og svo var hann stöðugt að stríða,
hann stærði sig jafnan af því hversu þjóð hans var rík.
En skósveinar auðvaldsins sögðu hann þjáningu þyngja
að þar færi maður með sprengju og heimtaði blóð.
Og heimurinn heyrði svo vopnin í vindinum syngja:
-Við erum hér til að hjálpa þér heiðingjaþjóð.
Kristján Hreinsson, skáld

23. Desember 2004

Allt í góðum gír við Kárahnjúka - segir Landsvirkjun

 
...Ég fylgist daglega með síðu Landsvirkjunar af framkvæmdunum, þar er sko allt í lagi. Til dæmis 21. des. 2004, trúði ég ekki, að enn væri 13 stiga hiti í Kárahnjúkum. Ég leit á síðu Veðurstofunnar, viti menn -20C og 20metrar á sekúndu. Samkvæmt síðunni er alltaf verið að slá met. T.d.: “Borvélarnar þrjár skiluðu alls um 600 metra löngum...
Snjólfur 

23. Desember 2004

Öryggisráðið: Ekki of seint að hætta við

Birtist í Morgunpósti VG 22.12.04
...Ríkisstjórnin hefur ekki sett fram nein sannfærandi rök fyrir því að seta Íslands í Öryggisráðinu sé eftirsóknarverð. Spurningin sem verður að svara er einföld. Á hvern hátt getur Ísland látið gott af sér leiða í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna? Ef ekki er hægt að svara þessari spurningu á afgerandi og sannfærandi hátt ber að hætta þegar í stað við framboð til Öryggisráðsins og beina kröftum utanríkisþjónustunnar að öðrum verkefnum...

22. Desember 2004

BSRB nær árangri á sviði réttindamála

BSRB í samstarfi við önnur samtök starfsfólks í almannaþjónustu hefur gengið frá samkomulagi við ríki og sveitarfélög um þætti er varða réttindi vegna lífeyrismála og örorkubóta. Réttindi launafólks skipta miklu máli þegar á reynir þótt iðulega sé einblínt á samninga um kaupgjaldið í almennri umræðu. Á heimasíðu BSRB er fjallað um samninga um ofangreind efni sem gengið hefur verið frá í desember.

21. Desember 2004

EKKI Í OKKAR NAFNI

Þjóðarhreyfingin gengst nú fyrir söfnun fyrir auglýsingu í bandarísku stórblaði til að skýra hvernig á því stóð að Íslendingar höfnuðu á lista hinna viljugu eða vígfúsu ríkja sem studdu Bandaríkjastjórn til innrásar í Írak (ríkisstjórnin vill helst nota hugtakið staðfastur sem þýðingu á enska hugtakinu willing sem er alrangt; viljugur eða vígfús í þessu samhengi er nær lagi). Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar róa nú að því öllum árum að ófrægja aðstandendur þessa framtaks. Síðan er hinu náttúrlega haldið á loft að ekki megi tala illa um þjóðina í útlöndum: Að út á við þurfum við að standa saman. Almennt virða Íslendingar þessa grunnreglu. Það eru hins vegar forsvarsmenn þjóðarinnar, þeir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra  og Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sem hafa brotið hana með því að ...

21. Desember 2004

Friðargæslan í Kabúl: Göfugt starf eða hreinsunardeild Bandaríkjahers?

...Í umfjöllun New York Times er rætt við Stefán Pálsson, formann Herstöðvaandstæðinga, sem segir eldri kynslóðina á Íslandi hafa verið stolta yfir því að íslendingar hefðu ekki her og brygði nú í brún við að sjá vopnaða Íslendinga á erlendri grundu. Þá er rætt við Illuga Gunnarsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra, sem segir af og frá að hinar vopnuðu sveitir séu hermenn og Einar K. Guðfinnsson, formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sem segir Íslendinga vinna "göfugt starf"  við uppbyggingu í Afganistan eftir að "hryðjuverkamönnum" hafi verið steypt þar af stóli...Eflaust þykir ... formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins athæfi Bandaríkjamanna í Írak vera sérlega "göfugt" eins og honum reyndar þykir um flestar gjörðir Bush og félaga...  

19. Desember 2004

Séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum skrifar: Pólitísk jólahugvekja

...Jólaguðspjallið er einföld saga – en innihaldsrík. Á yfirborðinu er allt friðsælt og fagurt en lesandinn þarf ekki að velkjast lengi í vafa um að þar er þungur undirstraumur. Það er hvorki jólasnjór né hækkandi sól, sem helgisögn Lúkasar snýst um...Þessa dagana les ég í nýútkominni bók vestanhafs. Fréttamaðurinn sem skrifar bókina, sem heitir Fall Bagdadborgar, er staddur í sjúkrahúsi í Bagdad löngu eftir að forseti Bandaríkjanna hafði lýst því yfir að stríðinu væri lokið. Tugir þúsunda óbreyttra borgara í Írak hafa eftir það látið lífið og særst í átökum. Blaðamaðurinn, Jon Lee Anderson, lýsir því sem fyrir augu ber þennan daginn. Hann horfir á lítið barn limlest og látið á sjúkrahúsinu. Lýsingin er í hrópandi mótsögn við yfirlýstan mannúðlegan tilgang stríðsins. Orðrétt segir...

19. Desember 2004

Þegar trúarbrögðin kallast á við samtíðina

Pólitísk jólahugvekja er titill greinar eftir séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum Kjós, sem birtist hér á heimasíðunni í dálkinum Frjálsir pennar. Greinin er í senn trúarleg og pólitísk eins og titillinn ber með sér. Séra Gunnar vill vekja okkur til umhugsunar og ábyrgðar, ekki aðeins kristna menn heldur alla menn ...

19. Desember 2004

Kínverskir þrælar?

...Ég var svo lánsamur þegar stóriðjuævintýrinu 1968 lauk og atvinnuleysið skall yfir þá var nóg vinna í Evrópu og ég ungur rafvirki greip tækifærið og fór til Hamborgar í skipasmiðar.  Í minni minningu voru Portúgalar sérlegar harðir karlar, sem gjarnan unnu erfiðustu störfin. Ástæða þessara pælinga  er að fréttinni fylgdi að Kínverjar þessir væru sérlega harðir og hefðu reynst vel í Gula gljúfri ef ég man rétt...
Rúnar

18. Desember 2004

Hvar er litli drengurinn?

Frá því að nýju raforkulögin birtust fyrst, verður mér ávallt hugsað til ævintýrsins um Nýju fötin keisarans. Ríkisstjórnin með Halldór sem keisara, hirðin meiri hlutinn á Alþingi, klæðskerarnir lögfræðinga- og verkfræðingahjörðin hér og  í ESB. Alþýðan erum við, en hvar er litli drengurinn? Höfum við kannski ekki lengur kjark til að hlusta á börnin.
Runki frá Snotru 

18. Desember 2004

Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Birtist í Morgunblaðinu 17.12.04.
...Ástæða væri til að spyrja almennra spurninga um framtíð heilbrigðisþjónustunnar og framtíð einstakra heilbrigðisstofnana og deilda innan þeirra. Ég ætla hins vegar að þessu sinni að leyfa mér að afmarka spurningar mínar við öldrunarþjónustuna. Í ljósi nýlegra atburða sem átt hafa sér stað innan hennar vil ég beina tveimur spurningum til heilbrigðisráðherra og vænti ég þess að hann svari á opinberum vettvangi. Í fyrsta lagi...

17. Desember 2004

Hvað segja forsvarsmenn Sjáfstæðisflokksins í skatta- og heilbrigðismálum um þetta?

Fyrir réttri viku birtist merkilegt viðtal í Morgunblaðinu við dr. J. Lariviére, aðallyfjaráðgjafa hjá alþjóðadeild kanadíska heilbrigðisráðuneytisins en hér á landi sat hann fund Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Dr. J. Lariviére varaði mjög eindregið við einkavæðingu og sagði að við ættum að meta að verðleikum grunnþætti heilbrigðiskerfisins. Þeir tryggðu aðgang að opinberri heilbrigðisþjónustu. Hann bætti því við að um þetta væri nokkuð víðtæk samstaða.

16. Desember 2004

Lítilmagni leitar ásjár í útlöndum

...En viti menn, á meðan niðurstöðu EFTA dómstólsins er beðið hafa  Samtök banka og verðbréfafyrirtækja, sem stillt hafa sér upp sem lítilmagna í þessu tafli, leitað ásjár hjá kollegum í útlöndum. Okkur er sagt í fréttum að ákallinu hefði verið svarað: Evrópusamtök banka, með hvorki meira né minna en 4500 fjármála- og verðbréfafyrirtæki innanborðs, hafa ályktað í þá veru að ósanngjarnt og óeðlilegt sé að íslenskt samfélag reki Íbúðalánasjóð...

15. Desember 2004

Er verið að venja börnin við?

...Ég held að flestir geti verið sammála um að spilafíkn sé alvarlegt þjóðfélagsmein og einnig held ég að við hljótum að geta verið sammála um að  kappkosta beri að vernda börn og unglinga gagnvart þessari vá. Varla verður það gert með því að setja upp kassa á borð við þá sem er að finna í sundlaugunum í Laugardal. Í anddyrinu þar er að finna sölukassa sem líkjast spilakössum og er greinilega ætlað að höfða beint til barna. Þetta eru sölukassar eins og áður segir en sölumennskan gengur út á að börnin safni tilteknum fígúrum og ræður tilviljun ein hvað fellur í þeirra hlut hverju sinni. Markmiðið er að eignast allar fígúrurnar sem í boði eru. Þessir kassar eru merktir SÁÁ og veit ég ekki hvort Íslandsspil komi þar við sögu. Sú spurning sem upp úr stendur er hvort með þessu söluformi sé ekki  verið að venja börnin við spilakassa. Er þetta rétta leiðin til að byggja upp fólk, eins og staðhæft er á kössunum?

15. Desember 2004

DRÖG AÐ BYLTINGU

Eftirfarandi ljóð er að finna á samnefndri geislaplötu sem Kristján Hreinsson, skáld, er að senda frá sér um þessar mundir:

Af þjófunum birtast svo magnaðar myndir,
við meinum þeir finna ráð
með brosandi andlit við olíulindir
þeir árangri hafa náð.
Menn verðlauna íslenska umhverfissóða
sem arðræna þjóðarsál
og nota hér allan sinn olíugróða
í íhaldsins leyndarmál.

15. Desember 2004

Baldur Andrésson skrifar: Grýlusögur

Svo ógurlegur var Hundtyrkinn í Eyjum forðum að hann bar með sér flösku með mannsblóði blönduðu byssupúðri til að auka sér grimmd. Þá sögu sögðu fréttamenn 17.aldar, prestar og annálaskrifarar sumir. Ekki þótti verra að lýsa skrattakollum þessum hressilega! Grýlusögur fjalla um mannætu. Grýla er þó ekki persóna í öllum grýlusögum. Grýlasagan um þessi jól verður um...

14. Desember 2004

Nokkrar spurningar um múrinn, pyntingar, dráp og fílinn á NATÓ-fundinum

- Hvað hefði verið sagt ef þessi kynþáttamúr – múr sem reistur er til að skilja að tvær þjóðir, og hafa land af annarri þeirra – hefði verið í Suður-Afríku á apartheid - tímanum?
- Hvers vegna er látið viðgangast mótmælalaust að Ísrael beiti pyntingum í fangelsum? Ísrael er eina landið í heiminum þar sem pyntingar eru beinlínis heimilaðar í lögum!
Hvers vegna lagðist fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra Íslands gegn því  að bygging kynþáttamúrsins yrði kærð til Alþjóðadómstólsins, kæra sem leiddi til sakfellingar Ísraels?
- Hvers vegna fáum við ekki að heyra meira um morð og ofbeldisverk sem ísraelski herinn fremur daglega á herteknu svæðunum í Palestínu?
- Hvers vegna fáum við ekki að heyra af ofbeldi og harðræði sem palestínskir forsetaframbjóðendur eru beittir af hálfu ísraelskra yfirvalda?
- Hvers vegna skyldu íslenskir ráðamenn vera eins ósamkvæmir sjálfum sér og raun ber vitni í afstöðu til Íraks annars vegar og Ísraels hins vegar? Íraksstjórn undir stjórn Saddams Husseins hundsaði á annan tug ályktana Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og var árás á landið m.a. réttlætt í því ljósi. Ísrael hefur hundsað yfrir 40 ályktanir SÞ? Enginn talar um að gera loftárás á Tel Aviv.

14. Desember 2004

Hjörtur Hjartarson skrifar: Átta spurningar og sjö svör

Eftirfarandi spurningar  og svör lúta að væntanlegri yfirlýsingu Þjóðarhreyfingarinnar í New York Times...Til hjálparstofnana ættu allir aflögufærir að gefa. Samkvæmt frétt RÚV kostar hernaðurinn í Írak 63 milljarða króna á viku og verður bráðlega 95 milljarðar króna, ca. ein Kárahnjúkavirkjun á viku. Nafn okkar og orðspor sem vopnlausrar og friðelskandi þjóðar er líka nokkurra króna virði. - Verði afgangur af söfnunarfénu rennur hann óskertur til Rauða kross Íslands til hjálpar stríðshrjáðum borgurum í Írak...

14. Desember 2004

Er samkeppni til hækkunar jákvæð?

Í leiðara Fréttablaðsins í dag er svo að skilja að blaðið fagni samkeppni í raforkumálum! Þetta hljómar undarlega því nú kemur á daginn að fyrstu kynni neytenda af samkeppninni verður hærra raforkuverð um áramótin þegar samkeppnisfyrirkomulag Valgerðar Sverrisdóttur og félaga verður að veruleika. Ekki heyrði ég betur en iðnaðarráðherrann hefði verið varaður við því á Alþingi fyrir þinglokin, að kerfisbreytingunni fylgdi kostnaðarhækkun fyrir neytendur þótt Valgerður reyni nú að þvo hendur sínar af öllu slíku. Þetta er ekki vandaður málflutningur og svo sannarlega ekki í samræmi við ...
Helgi

13. Desember 2004

Hugrenningar í kjölfar DV leiðara

Jónas Kristjánnsson, fyrrum ritstjóri DV skrifar reglulega leiðara í DV. Skrif hans eru jafnan beitt og vekjandi. Sérstaklega umhugsunarverður þótti mér leiðari hans síðastliðinn föstudag. Þar vék hann að hræringum á lánamarkaði og hugleiddi þær grundvallarbreytingar sem orðið hefðu í samfélaginu á síðustu árum. Fjármagn sem hefði verið af skornum skammti elti nú fólk á röndum eða með orðum Jónasar þá “ráfar” það “um banka og sjóði í leit að skuldurum.” Leiðari Jónasar ber yfirskriftina “Eign eða áskrift.” Hann sýnir fram á hvernig þjóðfélagið sé að breytast að því leyti að fólk sé hætt að...

13. Desember 2004

Varðstaða verkalýðsfélaga í alþjóðamálum mikilvæg

Sannast sagna þykir mér virðingarvert hve vel BSRB er vakandi í alþjóðamálum. Ég sé á heimasíðu þinni, að formaður Póstmannafélagsins, Þuríður Einarsdóttir, er nú kominn til Japans á vegum BSRB ásamt Einari Ólafssyni, einnig frá BSRB og Gylfa Arnbjörnssyni frá ASÍ. Það er gott að BSRB einblíni ekki bara á Evrópusambandið en er þó vakandi yfir því sem þar er að gerast, sbr...
Félagi í BSRB

12. Desember 2004

Guðmundur gleður Björn

...Ég vona að Guðmundur Ólafsson komi betur undirbúinn til kennslu en hann er þegar hann sest við skrftir fyrir Morgunblaðið. Að öðrum kosti kynni einhver að láta sér detta í hug að tími væri kominn fyrir  svona háskólakennara að hverfa til annarra starfa. En þótt skrif Guðmundar misstu marks að þessu sinni, tókst honum þó eitt. Honum tókst að gleðja Björn Bjarnason. Það er náttúrlega gustukaverk í skammdeginu...

9. Desember 2004

Stórmerkilegt framtak hjá BSRB


Frá undirritun samningsins: Inga Sigurðardóttir formaður Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva, Birna Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri Framvegis, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Elín Björg Jónsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB.

BSRB og Framvegis miðstöð um símenntun, undirrituðu samning um tungumálafræðslu BSRB, í dag, fimmtudaginn 9. desember kl. 13.00. Við það tækifæri sögðust báðir samningsaðilar hugsa gott til samstarfsins. Fulltrúar Framvegis og Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva sem munu annast kennsluna utan höfuðborgarsvæðisins, að þetta væri stórmerkilegt framktak hjá BSRB.

9. Desember 2004

Um kvóta, strandsiglingar og maurasýru

...Í sambandi við kvótamálin spyr ég hvert auðlindagjaldið fari? Er ekki eðlilegast að það renni til þeirra byggða sem viðkomandi útgerðir og kvótar tilheyra? Svo var ég að komast að því að um áramótin þegar strandsiglingum verður hætt verða keyrðir 20.000 lítrar af maurasýru (notuð í rækjuvinnslu) einu sinni í viku til Siglufjarðar. Þess má geta að 25-30 lítrar eyða öllu lífi í Mývatni. Hvað er hægt að gera í þessum málum...
Finnur Sigurðsson

8. Desember 2004

Halldór Ásgrímsson neitar að axla ábyrgð!

...Ekki verður hið sama sagt um spjall þeirra Halldórs og Óðins Jónssonar fréttamanns á morgunvakt RÚV í morgun. Þar var heldur meira logn. Í rabbi þeirra var vikið að þessum málum og enn eina ferðina "fræddi" Halldór Ásgrímsson þjóðina um stöðuna í alþjóðamálum. Í Afganistan hafi tekist að brjóta hryðjuverkamenn á bak aftur, þar sé nú lýðræði í hávegum haft; í Úkraínu hins vegar væri annað uppi á teningnum, það þekkti Halldór eftir dvöl sína þar. Allt minnti þetta nokkuð á það þegar sami maður kom á sínum tíma af fundi með bandarískum ráðamönnum og sagðist hafa óyggjandi sannanir fyrir gereyðingarvopnum í Írak! Aldrei hefur hann þurft að standa skil á því hverjar þessar sannanir hafi verið. Á Alþingi hafa bæði Halldór Ásgrímsson og núverandi utanríkisráðherra, Davíð Oddsson, farið undan í flæmingi, svarað út og suður eða með skætingi þegar upplýsinga hefur verið óskað og sem kunnugt er mæta þessir forsvarsmenn þjóðarinnar núorðið aðeins í fjölmiðla með því skilyrði að...

7. Desember 2004

En hvenær koma 90% lánin?

Íbúðalánasjóður er smám saman að sækja í sig veðrið. Það er vel. Ríkisstjórnin, eða öllu heldur félagsmálaráðherra hét því að hækka íbúðalán í 90%. Menn tóku það sem svo að 65% núverandi lánshlutfall yrði hækkað upp í 90% af verði venjulegrar íbúðar. Hámarksupphæð fyrir slík húsnæðislán er núna 11,5 milljónir. Sú upphæð er 65% af 17,7 milljónum. Það er algengt verð fyrir íbúðarhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu. Ef hækka á 11,5 milljónir upp í 90% af 17,7 milljónum – í samræmi við fyrirheit félagsmálaráðherra - yrði að heimila hækkun lána upp í tæpar 16 milljónir. Það var hins vegar ekki gert. Hámarkslán mega aðeins fara í 14,9 milljónir. Ríkisstjórnin hefur því enn ekki staðið við fyrirheit sín um 90% lán. 14,9 milljón króna hámarkslán sem nú eru í kortunum eru aðeins 84% af 17,7 milljónum, því viðmiðunarmarki sem nú er viðurkennt. 84% lán eru þannig orðin að veruleika, en ekki 90% lán. Eðlilegt er að spurt sé, hvenær koma 90% lánin?

7. Desember 2004

Forsætisráðherra sagði ósatt í Kastljósi

Forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, laug í Kastljósi í gærkvöldi. Hann sagði þar orðrétt, "við vorum beðin um...að styðja það að Saddam Hussein væri komið frá á grundvelli ályktunar Sameinuðu þjóðanna nr. 1441". Síðar í viðtalinu endurtók hann að "við studdum það að koma Saddam Hussein frá" og vísaði aftur til margra (ótilgreindra) ályktana Sameinuðu þjóðanna sem heimild fyrir slíkri aðgerð. Halldór sagði ósatt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gerði aldrei neina samþykkt um að...
Elías Davíðsson

7. Desember 2004

Hver skyldi vera tímaskekkjan Bjarni Ármannsson?

...Vill hann þá að skattborgarinn styrki dreifbýlið? Hvaða tímaskekkju er hann að tala um eiginlega? Jafnvel þótt Íbúðalánasjóður væri með niðurgreidda vexti vegna ákvörðunar samfélagsins þá væri það engin tímaskekkja að mínu mati. En svo er nú einu sinni ekki. Staðreyndin er sú að hagsmunagæslumenn fjármagnsaflanna eru tímaskekkjan í okkar samfélagi. Þeir vilja stefna samfélaginu aftur til fortíðar ...
Hafsteinn Orrason

6. Desember 2004

Morgunblaðið á lof skilið fyrir umfjöllun um spilafíkn

Allt frá því á laugardag hefur verið mjög athyglisverð umfjöllun í Morgunblaðinu um spilafíkn. Á laugardag birti blaðið bréf frá Ólafi M. Ólafssyni þar sem hann auglýsir eftir lögfræðingi til að taka mál sitt til Evrópudómstólsins. Ólafur tapaði öllum eigum sínu vegna þess að náinn venslamaður, sem hafði aðgang að bókhaldi hans, var haldinn spilafíkn. Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins var ítarlegt viðtal Skapta Hallgrímssonar við Ólaf ásamt ...

6. Desember 2004

Fulltrúar Íslands á heimsráðstefnu verkalýðsins í Japan

Þessa dagana fer fram í Miyazaki í Japan heimsráðstefna Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU). Á þinginu eru þrír fulltrúar frá Íslandi: Þuríður Einarsdóttir og Einar Ólafssson frá BSRB og Gylfi Arnbjörnsson frá ASÍ. Ástæða er til að vekja athygli lesenda síðunnar á fréttum af þinginu en þegar hefur birst ...

6. Desember 2004

Sátt við VG

Ég er mjög sátt við stefnu VG í skattamálum sem öðru. Stundum verð ég agndofa að fylgjast með Samfylkingunni í skattaumræðunni. Hún virðist vilja gera allt í senn, lækka skatta og auka útgjöldin! Er þetta trúverðugt? Öllum er lofað öllu fögru. Þá vil ég heldur staðfestu VG sem vill dreifa skattbyrðunum öðru vísi en nú er gert og breyta forgangsröðun við nýtingu skattfjárins. En flokkurinn neitar - og það finnst mér gott -  að skrifa upp á...
Sunna Sara

2. Desember 2004

Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu - Public Services International

Undanfarna daga hef ég setið stjórnarfund í Alþjóðasambandi starfsfólks í almannaþjónustu, Public Services International (PSI). Samtökin taka til allra heimsálfa og er geysilega fróðlegt að heyra frásagnir og lesa skýrslur frá öllum hornum heimsins. Engin samtök í heiminum, leyfi ég mér að fullyrða, er eins kröftugt mótvægi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Alþjóðabankann, Alþjóðaviðskiptastofnunina og aðrar valdastofnanir og valdatæki alþjóðafjármagnsins og einmitt þessi samtök. Yfir stöðuna í þessu samskiptum var ...

2. Desember 2004

Guantanomó - "víti á jörðu" - hverjir mótmæltu?

Eftir viðtal við breskan blaðamann í Ríkissjónvarpinu er ég að reyna að rifja það upp hverir studdu innrásina í Afganistan, sem gat af sér “Guantanamó-helvítið á jörð”. Voru það ekki allir flokkar að undanskildum Vinstri grænum...
Runki frá Snotru

1. Desember 2004

Er 13. janúar táknrænn fyrir vinnubrögð Evrópusambandsins?

Eitt er víst. Evrópuþingið hefur reynst fullkomlega vanmáttugt í viðureign sinni við fulltrúa peningahyggjunnar, sem ráða nú lögum og lofum innan stjórnarnefndar ESB. Gagnrýnin andstaða hefur hins vegar komið frá verkalýðshreyfingunni í Evrópu. Hún hefur í fyrsta skipti í langan tíma sýnt að enn rennur í henni blóðið. Hér á Íslandi hefur BSRB staðið rækilega vaktina, örvað til umræðu og upplýst fólk um málið. Í ráðgjafanefnd EFTA hefur fulltrúi BSRB haft uppi alvarlega fyrirvara og verið einn um bókun hvað þetta varðar.
Fyrir Íslendinga er þetta ekki síður alvarlegt mál en Evrópusambandsþjóðirnar því þær ...

29. Nóvember 2004

Bankar leita "réttar" síns á samráðsvettvangi

Þarna eru fjórir bankastjórar. Einn úr KB banka, annar úr Íslandsbanka, sá þriðji úr Sparisjóðabankanum og sá fjórði úr Landsbankanum. Með öðrum orðum, þetta er samráðsvettvangur bankanna, þeirra aðila sem þykjast eiga hér í bullandi samkeppni. Þeir sammælast um að reyna að koma erfiðasta keppinaut sínum, þeim aðila sem best gætir almannahagsmuna, út af markaði! Er þetta sæmandi? Samræmist þetta lögum? Svari nú allir áhugamennirnir um frjálsa samkeppni.

28. Nóvember 2004

Vill Sjálfstæðisflokkurinn minnka íbúðarhúsnæði eða veikja Íbúðalánasjóð?

... Þetta þykist ég vita að sé ekki stefna félagsmálaráðherra. Spurningin er þá hvort það sé stefna Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn að minnka íbúðarhúsnæði landsmanna. Eða er einfaldlega verið að ganga erinda bankanna sem vilja Íbúðalánasjóð feigan og þess vegna þrengja alla möguleika hans til útlána ...

27. Nóvember 2004

Af Okkur - þökkum blandin gagnrýni

Nýhil útgáfan hefur gefið út annað rit sitt og nefnist það Af okkur undir ritstjórn Viðars Þorsteinssonar og fjallar um þjóðerni og hnattvæðingu. Fyrsta ritið hét Af Stríði undir ritstjórn Hauks Más Helgasonar og fjallaði sú bók um Íraksstríðið og var lítillega um hana fjallað hér á síðunni enda bókin sérlega áhugaverð og vekjandi ... Í bókinni Af Okkur eru margar skemmtilegar greinar, ljóð og myndir og ljóst að þarna fara miklir eldhugar. Í bókinni úir og grúir af nýhugsun og skarpri þjóðfélagsgagnrýni ... Það er mikilvægt að örva umræðu um hugmyndir og pólitík. Nýhil útgáfan gerir það svo sannarlega með útgáfu bókarinnar Af okkur. Ég staldraði ögn við þau ummæli ...

26. Nóvember 2004

BJÖRN DREYMIR BUSH

Staðan víst er orðin aum
og ekki lengur fyndin;
Björn á nú þann besta draum
að Bush sé fyrirmyndin.
Kristján Hreinsson, skáld

23. Nóvember 2004

Húrra fyrir ÖBÍ !

Öryrkjabandalag Íslands birtir heilsíðuauglýsingu í blöðum í dag með mynd af ríkisstjórninni og áminningu um svikin loforð hennar gagnvart öryrkjum. Sviksemi ráðherranna við öryrkja þarf að halda hátt á lofti alveg fram að næstu Alþingiskosningum. Þessi mannskapur virðist komast upp með allt vegna gleymsku almennings og síðan að sjálfsögðu lýtaaðgerða...
Sunna Sara

23. Nóvember 2004

En verða peningarnir eftir í vasanum Geir?

Birtist í Morgunblaðinu 22.11.04.
...Er hér verið að tala til sjúkrahúsanna og annarra velferðarstofnana samfélagsins, þessara dæmigerðu "óábyrgu aðila" sem sífellt sprengja fjárlagarammann?  Er ef til vill verið að tala til  harðvítugra "þrýstihópa" á borð við elliheimili og stofnanir fyrir þroskahefta og annarra af því sauðahúsi? Er harkalegt og ósanngjarnt að setja dæmið upp með þessum hætti? Nei, þetta er raunveruleikinn! Auðvitað sér allt skynsamt fólk ...

22. Nóvember 2004

Björn og leyniþjónustan

Lengi framan af hentu menn gaman að áhuga Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, á hermennsku. Það lá við að mönnum þætti þessi áhugi Björns barnalegur, svona í ætt við áhuga á tindátum og hermannaleik. Í fjölmiðlum birtust skopmyndir af Birni í hermannagalla með kaskeiti og medalíur. Nú eru menn hins vegar hættir að hlæja að Birni. Nú vita menn að...

22. Nóvember 2004

Vextir niður en þjónustugjöldin upp

Hvernig stendur á þvi að um leið og bankastofnanir eru i samkeppni, þá eru þær farnar að taka gjald fyrir hvert einasta viðvik. Sparisjóðurinn i Smáralindinni tekur 190 kr. í afgreiðslugjald ef maður kemur eftir kl. 16:00 á daginn.
p.s. Hann opnar ekki fyrr en kl. 12:00. Hvað er i gangi hjá þessum fjármálastofnunum sem eru með þessa peninga sem eiga að vera til skiptanna i þessu þjóðfelagi?
Mansi  

21. Nóvember 2004

Fróðleiksmoli um framlag ríkisstjórnar Íslands til mannréttinda í Írak

...En hvað þá með raunverulegan meirihlutavilja hjá Sameinuðu þjóðunum? Hann hefur alla tíð verið algerlega á móti hernaðarofbeldi Bandaríkjanna! Í nóvember 1998, eftir að öllum var orðið löngu ljóst að viðskiptabannið á Írak hafði leitt til dauða mörg hundruð þúsund manna, einkum barna og veikburða fólks, þannig að nánast allar stofnanir Sameinuðu þjóðanna börðust gegn banninu, svo sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, og hver stjórnandi mannúðarhjálpar á vegum SÞ í Írak á fætur öðrum sagði af sér í mótmælaskyni, var borin fram ályktunartillaga á  Allsherjarþingi SÞ þar sem hvatt var til að ríki beiti ekki einhliða þvingunaraðgerðum ef þær stríði gegn grundvallarmannrréttindum og stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna...

21. Nóvember 2004

ÞJÁNINGARFRELSIÐ

Úr væntanlegri ljóðabók skáldsins:

Að fordæma samráð en fallast á stuld
og féfletta þjáningarbróður
er einsog að hlaupast frá ógreiddri skuld
og ásaka þann sem er góður.
Kristján Hreinsson, skáld

 

20. Nóvember 2004

Telja menn Gunnar Smára þóknanlegan Davíð og félögum?

Ég hef fylgst með skrifunum hér á síðunni, þar með taldar tilvísanir í skrif Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu, um hræringar í Norðurljósum og að Sigurður G. Guðjónsson kunni að hafa verið rekinn til að milda Davíð Oddsson og ríkisstjórnina. Það er rétt að Sigurður gagnrýndi oft Davíð og ríkisstjórnina. En heldur þykir mér ótrúlegt að menn ráði Gunnar Smára Egilsson í stað hans í því skyni að kaupa frið við Davíð&Co.! Hvernig í ósköpunum geta menn komist að ...
Nebúkadnesar

20. Nóvember 2004

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins dregur rangar ályktanir

Einar K. Guðfinnsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins veltir vöngum yfir því á heimasíðu sinni hvort ég sé orðinn sammála ríkisstjórninni í fjölmiðlamálinu. Vitnar hann þar í vangaveltur mínar hér á síðunni að undanförnu um hræringar í Norðurljósum ... Afstaða Sjálfstæðisflokksins virðist mér hins vegar vera sú að afhenda beri allar þjóðareignir, hverju nafni sem þær nefnast, fjárfestum á markaði. Síðan komi vel til greina að reisa fyrirtækjum einhverjar skorður, sérstaklega ef þau reynast Sjálfstæðisflokknum óþægur ljár í þúfu...

19. Nóvember 2004

Hvað verða margir grafnir?


Við fáum nú fréttir í hverjum fréttatíma frá Írak. Okkur er sagt frá stórsigrum bandaríska hernámsliðsins þar. Svo er að skilja að mannfall hafi ekki orðið mikið í röðum þess og látið að því liggja að óbreyttir borgarar séu nánast undanþegnir hörmungum stríðsins þrátt fyrir að heimkynni þeirra hafi verið jöfnuð við jörðu, skrúfað fyrir vatn og rafmagn, taugaveiki að breiðast út og haldið uppi stórskotaárásum á þá. Þeir einu sem kúlurnar hitti hins vegar séu lögmæt skotmörk, “hryðjuverkamenn” eins og bandarísk hermálayfirvöld skilgreina alla þá sem andæfa hernáminu. Eitthvað kemur þetta ekki heim og saman og hafa gagnrýnir fréttamenn vestan hafs og austan vakið máls á því. Í þeirra hópi er Greg Palast ...

18. Nóvember 2004

Verða fleiri leystir frá störfum?

Birtist í Morgunpósti VG 17.11.04.
...Hvað skyldi Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna hafa gert við bréfið – eða öllu heldur ákallið - sem hann fékk frá borgaryfirvöldum í Fallujah þar sem hann var beðinn um stuðning Sameinuðu þjóðanna að koma í veg fyrir fyrirsjáanleg fjöldamorð og hryðjuverk Bandaríkjahers? Skyldi hann hafa sent erindið til Öryggisráðsins? Hefði verið gott að þar sæti nú fulltrúi Íslands? Hefðu íbúar Fallujah átt þar hauk í horni? Hefði hann krafist þess að Öryggisráðið fordæmdi Bandaríkjastjórn og bresku stjórnina og vitorðsmenn þeirra fyrir stríðsglæpi? Er það kannski frekar...

17. Nóvember 2004

Páll H. Hannesson skrifar: Hernaðarútgjöld íslenska ríkisins aukast

...Ég get því ekki séð annað en að málið sé skýrt; Bandaríkjamenn eru að flytja allt sitt herlið til í heiminum og þeir eru að fara héðan líka. Ef að við viljum hins vegar kaupa afnot af hertólum þeirra og hermönnum, þá má ræða það og reyna að ná saman um hvað það eigi að kosta. Íslendingar eru með öðrum orðum að koma sér upp málaliðaher. Við kaupum okkar her, tilbúinn í pakka, og greiðum eigendum hans fyrir í föstu fé. Ef engin greiðsla kemur til frá íslenska ríkinu, fer herinn einfaldlega annað að sinna öðrum og brýnni hagsmunamálum fyrir bandaríska heimsveldið...

17. Nóvember 2004

Auglýsingavald – Að kaupa sjálfan sig - Er vilji til enn meiri framfara?

Hér á síðunni voru fyrir nokkrum dögum reifaðar keninngar um valdatafl í Norðurljósum – og Stjórnarráði. Lesandi hafði spurt hvort verið gæti að sáttagjörð væri í smíðum á milli Norðurljósa og Stjórnarráðsins og væri þar komin skýringin á brottvikningu Sigurðar G. Guðjónssonar frá Norðurljósum. Í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu um síðustu helgi eru líkur leiddar að því að einmitt þetta hafi verið að gerast. En það var margt annað merkilegt og umhugsunarvert sem fram kom í grein Agnesar. Ég staldraði t.d. við eftirfarandi í framhaldi af...

17. Nóvember 2004

HINN STERKI MINNIHLUTI

Hví eru ýmsir svo argir
og öfundin svo sterk
þótt sjálfstæðismenn séu margir
og misjöfn þeirra verk?
Kristján Hreinsson, skáld

16. Nóvember 2004

Þjóð í þrengingum - Arafat allur. Ræða á samstöðufundi

...Eina leiðin til að skilja Yasser Arafat er að skipta út nafninu Arafat fyrir baráttu palestínsku þjóðarinnar. Öll gagnrýni á Arafat er gagnrýni á þessa baráttu. Hann fæddist inn í baráttuna fyrir frelsi og dó umkringdur óvinum. Undir lokin var litið á hann sem þránd í götu friðarsamninga. Þrátt fyrir að hann hafi verið tilbúinn að gefa eftir mun meira land en margir Palestínumenn gátu sætt sig við, þá var hann aldrei tilbúinn til að semja um að falla frá réttinum til að snúa aftur frá flóttamannabúðunum. Þessi réttur var honum meira virði en frelsi strax, þar sem hann taldi að það yrði hægt að byggja upp pólitíska baráttu síðar, ef fólk aðeins "fengi að snúa aftur". ..

16. Nóvember 2004

Mótmælum stríðsglæpunum í Írak

Undanfarna sólarhringa hafa borist fréttir af stríðsglæpum í Írak. Fallujah, 300.000 manna borg, hefur nánast verið jöfnuð við jörðu. Enginn veit hve margir óbreyttir borgarar hafa verið drepnir. Fyrir árásina var skrúfað fyrir vatn og rafmagn til borgarbúa. Hjálparstofnunum var meinaður aðgangur að borginni og allur flutningur hjálpargagna inn í hana bannaður. Fyrsta takmark árásarliðsins var að ná sjúkrahúsum á sitt vald til að koma í veg fyrir að fréttir bærust af mannfalli. Sprengjum og stýriflaugum hefur verið skotið á borgina af handahófi dögum saman. Drykkjarvatnið er orðið eitrað – taugaveiki breiðist nú út...Við hljótum öll að mótmæla þessum stríðsglæpum og krefjast þess að ríkisstjórn Íslands geri slíkt hið sama opinberlega og á alþjóðavettvangi...

16. Nóvember 2004

Er stríð aldrei réttlætanlegt?

Ég á erfitt með að skilja afstöðu Vg til stríðsins í Afganistan. Hvað hefðu Bandaríkin átt að gera? Ekkert? Er aldrei réttlætanlegt að fara út í stríð að ykkar mati...?
Sveinsson

16. Nóvember 2004

Grænmetisætur og skattamál

Vinstri grænir gefa sig út fyrir að vera náttúruverndarsinnar, en hversu langt nær sú hugsun? Hyggst flokkurinn gera eitthvað til að bæta hag annarra náttúruverndarsinna hér á landi, grænmetisætna, til dæmis með því að fá niðurfelldan munaðarvöruskatt á soyavörum...?
Erna

15. Nóvember 2004

Samstöðufundur með Palestínu

Þjóð í þrengingum - samstöðufundur með Palestínumönnum er yfirskrift fundar sem haldinn verður í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.00. Eftir fráfall Arafats eru blikur á lofti í Palestínu og því mikilvægt að sýna palestínsku þjóðinni samstöðu.Um áratugi hefur hún mátt þola þrengingar og harðræði að hálfu hernámsliðs Ísraels. Kynþáttaaðskilnaðarmúrinn er til marks um hversu langt er gengið í ofsóknum á hendur Palestínumönnum. Enda þótt Ísraelsstjórn láti í veðri vaka að hún sé nú að draga úr útþenslu á Gaza sviftir kynþáttamúrinn Palestínumenn á Vesturbakkanum stóru svæðum. Múrinn er auk þess reistur til að sundra landi og byggðum, fjölskyldum og samfélagi...

14. Nóvember 2004

HINN ÍSLENSKI ÞRÆLL

Hinn auðmjúki, íslenski þræll
er ötull og víst er hann dæll
þótt kvalin hann störfin sín stundi
og stæri sig mest af því
að biðja um betri laun,
hann brosir að sinni raun
og líkist þá hógværum hundi
sem húsbóndinn sparkar í.

Kristján Hreinsson, skáld

13. Nóvember 2004

Morgunblaðið reynir að skýra "Norðurljósadílinn"

Fyrir nokkrum dögum beindi lesandi til mín spurningum um hræringarnar hjá Norðurljósum, sem ég ekki kunni svör við. Niðurlagsorðin í bréfinu voru þessi: "Eitt smáatriði í lokin. Fyrir okkur sem eru áhorfendur er eitt atriði í símabyltingunni óskiljanlegt. Talsmenn Norðurljósa halda ekki vatni yfir stjórnvisku Sigurðar G. Guðjónssonar, sem nú hefur verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Við höfum fylgst með honum skylmast við forkólfa sjálfstæðismanna ..."...Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins kunna að vera komin svörin .... Þar er ítarleg fréttaskýring eftir Agnesi Bragadóttur og er hún kynnt í forsíðufrétt. Þar segir m.a.: "að skiptar skoðanir eru á því hversvegna Sigurði G. Guðjónssyni, forstjóra Norðurljósa ,.. var skyndilega sagt upp störfum ...

13. Nóvember 2004

Í ORÐASTAÐ DAVÍÐS ODDSSONAR EFTIR UTANRÍKISUMRÆÐU Á ALÞINGI

Mannréttindi ég stundum skil,
sem mennirnir séu jafnir.
En oftar ég þann skilning vil,
að við séum yfirhafnir.

Páll

11. Nóvember 2004

Ekki sáttur

Margtuggið var í fréttum í dag að stjórnarandstaðan hefði ekki miklar væntingar vegna fundar Davíðs við stríðshaukanna í Bandaríkjunum. Ég er stjórnarandstæðingur og hef miklar væntingar af þessum viðræðum. Ég vænti þess að herinn fari og að sjálfsögðu göngum við úr Nató, þar sem við eigum ekki að byggja afkomu okkar á stríðsgróða og hermangi. Hvað með þig Ögmundur?
Önnur frétt, stjórnarandstaðan ætlar ekki að tefja lög á kennara, sem sennilega hafa alltaf verið markmið launanefndar sveitarfélaga. Hvað með þig Ögmundur, formaður BSRB?
Rúnar  
 

11. Nóvember 2004

John Pilger um Írak

Fréttamaðurinn og fræðimaðurinn John Pilger birtir stórmerkilega grein í New Statesman í dag undir fyrirsögninni Írak: Hið ótrúlega verður eðlilegt ( Iraq: the unthinkable becomes normal). Hann byrjar grein sína á atburðunum í Fallujah í Írak sem Bandaríkjaher herjar nú hvað harðast á. Hann vekur athygli okkar á því að fjölmiðlar virðist telja að þar búi nú aðallega "uppreisnarmenn". Staðreyndin sé hins vegar sú að þar sé "konum og börnum slátrað í okkar nafni." Hvernig má það vera að þetta gerist? Pilger vitnar í ...

11. Nóvember 2004

Vaxandi efasemdir um að Íslendingar eigi erindi í Öryggisráð SÞ

Í dag flutti Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, skýrslu á Alþingi. Þar komu fram áherslur ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum: Fullkomin fylgispekt, nú sem fyrr, við utanríkisstefnu Bandaríkjanna, sennilega enn andheitari ástarjátning en nokkru sinni fyrr. Skýringin er ekki skoðanamunur þeirra Davíðs og Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, heldur hitt að Davíð er sennilega meiri tilfinningamaður og tjáir sig ákafar. Þó held ég að Halldór hefði ekki gengið eins langt og Davíð gerði í dag í formælingum í garð...

11. Nóvember 2004

Íslandsbanki fær prik

Stöð 2 vakti athygli á því fyrir fáeinum dögum að Íslandsbanki krefðist þvagsýna og lífsýna af fólki sem sæktist eftir tilteknum lánveitingum hjá bankanum! Í kjölfar fréttar Stöðvar 2 tók ég málið upp á Alþingi og varð af þessu frekari umræða í þjóðfélaginu. Þetta leiddi síðan til þess að Íslandsbanki tók málið til endurskoðunar, átti fund með fulltrúum Öryrkjabandalagsins um málið, og var nú gefin út yfirlýsing að ofangreind skilyrði yrðu ekki sett fyrir lánveitingunum. Af þessu má draga eftirfarandi lærdóma...

10. Nóvember 2004

Borgarstjórinn burtu fór


Nú atburður er orðinn stór
- ekkert þótti vænna
og borgarstjórinn burtu fór
í boði Vinstri-grænna.

Kristján Hreinsson, skáld

10. Nóvember 2004

1000 kall á ári og samráðsárin ljúfu

Undarleg tilveran. Þórólfur tilkynnir um að hann hætti mestan part vegna krafna fulltrúa VG ef marka má fréttir og eftir sitjum við hugsi... hvernig stendur á að olíufélögin hafa getað komið sér svona fyrir á 11 ára tímabili. Er hugsanlegt að Samkeppnisstofnun hafi orðið á í messunni, eða viðskiptaráðherrum síðustu 11 ára? Er kannske einhver í Samkeppnisstofnun, eða í viðskiptaráðuneytinu sem hefði átt að segja af sér? Arnarhváll var vinnustaður Finns Ingólfssonar um nokkurra ára skeið. Hann varð viðskiptaráðherra 1995 ef ég man rétt og sat hann þessi ljúfu samráðsár í embætti. Gæti verið eitthvað samband milli afskiptaleysis Samkeppnisstofnunar eða viðskiptaráðherra, hverjir áttu Essó á samráðstímanum og hverjir voru þar innstu koppar í búri...?
Ólína

9. Nóvember 2004

Athyglisverð námskeið um NATÓ og Öryggisráðið!

Hér á síðunni hefur þú oft vakið athygli á ýmsu uppbyggilegu sem er að gerast á róttækari væng stjórnmálanna, eða eigum við einfaldlega að segja, á þeim væng stjórnmálanna þar sem ekki ríkir doði og meðvitundarleysi.  Mig langar til að vekja athygli á námssmiðju um NATÓ, sem á að hefjast á miðvikudaginn n.k. kl. 17-19 og á að enda í lok janúar. Nemendur hittast á tveggja vikna fresti. Staður...
N.N.

9. Nóvember 2004

Glæpur og refsing

...Hver ætti að vera hæfileg refsing fyrir samráðsglæp sem hefur kostað borgara þessa lands 40 miljarða, þegar hægt er að dæma mann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að stela tímariti og oststykki? 4: Er ekki eitthvað mikið að siðferðislega þegar mönnum finnst þetta samráð bara sjálfsagður hlutur og koma umvörpum fram í fjölmiðlum og reyna að bera þetta af sér þrátt fyrir að gögn samkeppnisstofnunnar sýni svart á hvítu hvað hefur verið í gangi...? 
Hrafnkell Daníelsson.

9. Nóvember 2004

Þórólfur gerði rétt

...Reykjavíkurfélag VG efndi til félagsfundar í kvöld. Þar var ákvörðun borgarstjóra fagnað. Þórólfur Árnason sendi vinsamleg skilaboð inn á fundinn og var þeim vel tekið. Ég hef fylgst náið með framvindu þessa máls. Af hálfu VG var frá upphafi fjallað um það af mikilli alvöru en alltaf reiðilaust. Á fundinum í kvöld lýstu margir velvilja í garð Þórólfs Árnasonar. Það breytir því ekki að fundarmönnum þótti hann breyta rétt...

8. Nóvember 2004

Olía á bálið

 
Þórólfur vill þrauka enn,
það er heila málið
meðan ausa aðrir menn
olíu á bálið.
 
Kristján Hreinsson, skáld
 

8. Nóvember 2004

Örfá orð um ábyrgð og pólitíska ábyrgð

Einu sinni var kanadískt olíufélag sem langaði að slá sér niður á Íslandi og selja Íslendingum ódýrara bensín og útgerðinni ódýrari olíur. Þetta vildi olíufélagið gera vegna þess að það vissi, eins og við öll, að hér ríkti fákeppni og hér var hægt að græða á bensínsölu. Þetta var um svipað leyti og Reykjavíkurlistinn lagði íhaldið að velli í Reykjavík. Áhugi Kanadamannanna vakti vonir alþýðukonu um lægra orkuverð og hún fylgdist spennt með tilraunum þeirra til að koma sér fyrir í Reykjavík og nágrenni. Eitthvað gekk það illa. Skyndilega varð lítið framboð af lóðum undir bensínstöðvar, erfiðleikar að koma olíuskipum að í höfnum í Reykjavík og þannig mætti ...
Ólína

8. Nóvember 2004

Elías Davíðsson skrifar: Nokkrar ábendingar um skilgreiningar í hernaði

Umræðan um það hvort "friðargæsluliðarnir" séu eða séu ekki hermenn, hefur fyrst og fremst lagalega þýðingu:
(a) Eru þeir í "herþjónustu" sbr. 114. gr. alm. hegningarlaga ?
(b) Eru þeir "hermenn" sbr. skilgreiningu viðbótarbókunar I við Genfarsáttmálana?
Til að svara (a) er rétt að leita fanga í þjóðarétti. Það er engin alþjóðleg skilgreining á "herþjónustu". Hins vegar skilgreinir Viðbótarbókun I við Genfarsáttmálana hvað er átt við með stríðandi aðila og hvað er átt við ...

8. Nóvember 2004

"Ríkið á ekki að gera það sem einstaklingar og fyrirtæki geta gert."

Staðhæfingin í fyrirsögninni hefur lengi verið viðkvæðið hjá ríkisstjórninni og reyndar markaðshyggjufólki almennt. Á þessari forsendu voru ríkisbankarnir m.a. hlutafélagavæddir og seldir. Nú er að komast reynsla á hvernig einkabanki án aðhalds frá bönkum í almannaeigu (þakka skyldi þó Íbúðalánasjóð)  bera sig að. Í gærkvöldi var eftirfarandi frétt á Stöð tvö undir fyrirsögninni, Lántakendur skili þvagsýni: "Þeir sem sækja um hundrað prósent íbúðalán hjá Íslandsbanka verða að taka ...

7. Nóvember 2004

Fyrir alla hina


Það böl sem er í borgarstjórn
bráðum tekst að lina
ef borgarstjórinn færir fórn
fyrir alla hina.
 
Kristján Hreinsson, skáld
 

7. Nóvember 2004

Ábyrgð Ingibjargar Sólrúnar

...Það var nefnilega þannig að þegar Ingibjörg réði Þórólf sagði hann henni sjálfur frá því að hann væri í rannsókn Samkeppnisstofnunar vegna meintrar aðildar hans að samráðinu. Hún vissi því af áhættunni og þetta sagði Þórólfur henni til að hún gæti metið áhættuna af því að ráða hann. Hún hefði getað leitað til manna einsog Ragnars Aðalsteinssonar hrl., eða leitað óformlega ráða hjá Samkeppnisstofnun. Ingibjörg Sólrún klúðraði hvorutveggja. Hún sagði ekki einu sinni...
MT

7. Nóvember 2004

" Það er stór synd að neyta aflsmunar”

Þegar séra Gunnar Kristjánsson, Reynivöllum í Kjós, predikar þá hlusta menn – og ekki að ástæðulausu. Það sannaðist enn einu sinni nú í dag þegar útvarpað var úr Brautarholtskirkju messu þar sem séra Gunnar predikaði: Hann á jafnan erindi við fólk, fær okkur til að staldra við og velta fyrir okkur heimspekilegum álitamálum. Þótt séra Gunnar sæki iðulega efnivið í liðinn tíma er samtíminn aldrei langt undan. Í dag rýndi hann í leikritin Sölumaður deyr eftir Arthur Miller og leikrit Hrafnhildar Hagalín, Norður, sem nú er á fjölum Þjóðleikhússins og í Töluð orð Andrésar Björnssonar. Undirliggjandi var boðskapur Fjallræðunnar...

6. Nóvember 2004

Jóhann Tómasson skrifar: Siðlaus gagnaeyðing

...Skólabróðir Baldurs er Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. Á árum áður vildu þeir "báknið burt". Nú hafa þeir báðir skilað sér heim þar sem fyrir voru félagar þeirra, Friðrik Sóphusson, Davíð Oddsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson alla tíð. Jón Steinar er óumdeilanlega snjall lögmaður og óragur. Hann verður hins vegar vegna framlags síns í þágu gagnagrunnsmálins vanhæfur í Hæstarétti komi málið frekar til kasta réttarins eins og líklegt má telja. Eins alþjóð veit skoruðu ríflega hundrað lögmenn með eigin undirskrift á dómsmálaráðherra að veita Jóni embætti hæstarréttardómara. Frelsi höfðu þeir til þessa en því fylgdu skyldur - m.a. upplýsingaskylda. Meðferð áskorunarskjalsins ...

6. Nóvember 2004

Nóg af snæri í sveitinni

...Annars erum við í Snotru á því að þetta sé aðeins lítið brot af ísjakanum. Hvað um samráð tryggingafélaganna, bankanna, símafélaganna,  byggingarvöruverslana, matvöruverslana og fleiri og fleiri? Gunnar Birgisson, þingmaður Íhaldsins, hélt tárvota ræðu á þinginu í vikunni þar sem þessi mál voru til umræðu. Hann sagðist harma að menn væru tilbúnir að hengja þá menn sem hrasað hefðu í þessu máli. Um bæinn gengju menn með snærishönk í vasanum, þá væntanlega til að hafa hengingarsnúruna klára. Ábúendur hér í Snotru eru ekki mikið gefnir fyrir að hengja fólk, erum því reyndar fráhverf. Hins vegar þarf að ...
Runki frá Snotru  

5. Nóvember 2004

Hafði Davíð rétt fyrir sér, eða hver er díllinn?

...Nú er skyndilega komin upp ný staða. Tveir risar hafa slegið sér niður á fjölmiðlamarkaðnum og báðir eru símafyrirtæki, dreifendur og framleiðendur efnisins sem fjölmiðlarnir framleiða. Á blaðamarkaðnum ráða Norðurljós yfir dreifingunni, og í ljósvakanum eru Síminn og Og fjarskipti dreifendur og framleiðendur efnis. Brynjólfur Bjarnason forstjóri Símans er aðal talsmaður Skjás eins og norðurljósabatteríð, eða fjölmiðlarnir sem eru undir því skilti, eru nú undir stjórn eins manns sem að því er virðist er bæði handgenginn aðaleigendum samsteypunnar og er þarf fyrir utan einn af eigendum fyrirtækisins...Talsmenn Norðurljósa halda ekki vatni yfir stjórnvisku Sigurðar G. Guðjónssonar...Ef marka má yfirlýsingar norðurljósamanna á hann stærstan þátt í að koma í veg fyrir endanlegt gjaldþrot Norðurljósa. Af hverju var hann þá rekinn, eða af hverju þurfti að fórna honum? Getur verið að hann sé...
Stefán

5. Nóvember 2004

Tíminn eða tímaskekkjan?

...Allt þetta kemur upp í hugann af því tilefni að nú er hafin útgáfa á vefriti sem ber nafnið Tíminn. Líkt og forveranum er þessum Vef-Tíma ætlað að þjóna stefnu Framsóknarflokksins. Vonandi á þessu nýi miðill eftir að braggast en ekki verður sagt að mikil reisn sé yfir Vef -Tíma það sem af er. Nýjasta dæmið get ég dæmt um af eigin raun. Í vikunni fór fram ...

5. Nóvember 2004

Ekki fór einokunargróði olíufélaganna í Hvalfjörðinn!


Fyrir botni Hvalfjarðar hafa íslensku olíufélögin birgðatanka fyrir eldsneyti. Einng mun NATÓ hafa þarna tanka frá fyrri tíð. Eftir því sem ég kemst næst hirðir hernaðarbandalagið vel um sína tanka. Ekki verður hið sama sagt um olíufélögin. Ryðgaðir tankarnir blasa við þeim sem eiga leið um Miðsand í Hvalfirði. Getur það talist forsvaranlegt að olíufélögin hætti að sinna viðhaldi birgðageymslanna og láti þær ryðga niður? Þetta er ekki bara ljótt að sjá heldur líka hættulegt...

4. Nóvember 2004

Þjófnaður um hábjartan dag!

...Þú nefnir þarna að Ríkisstjórnin sé að koma Þjóðareignum til fákepnisrisanna. Hefði ekki átt að samþykkja fjölmiðlafrumvarpið? En áfram með Olíufélögin. Þetta er Þjófnaður um hábjartan dag.
kv. Gunnar

3. Nóvember 2004

Ögmundur, slástu með okkur innan ESB!

BSRB á þakkir skildar fyrir að standa að fundinum um drög að þjónustutilskipun ESB, þar sem fulltrúar samtaka evrópskra opinberra starfsmanna kynntu viðhorf sín. Mér finnst hins vegar upplýsingar þeirra undirstrika enn frekar nauðsyn þess að menn einsog Ögmundur sláist í lið með okkur Evrópusinnum, taki upp baráttuna fyrir að ganga þar inn, til að við getum læst okkur þar saman í sameiginlegri baráttu gegn ýmsu miður góðu sem þar er á ferð. Ég trúi því nefnilega í hjarta mínu að það sé ekki erfitt að breyta Evrópusambandinu í átt að auknu lýðræði, og í átt að vinsamlegri stefnu gagnvart þróunarríkjunum. Viðskiptafrelsi þeirra inn á svæði ESB tel ég vera bestu aðferðina til að hjálpa þeim til að brjótast til bjargálna. Ég treysti mér til að fara langt í að breyta sambandinu í þá átt ef ég hef vaska baráttumenn einsog eiganda þessarar heimasíðu...
Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar.

1. Nóvember 2004

Nú skiljum við!

Samkeppnisstofnun hefur veitt okkur innsýn í vinnubrögð á fákeppnismarkaði: Stórfellt svindl stundað af yfirvegaðri nákvæmni; lagt á ráðin um hvernig hægt væri að hafa sem mest af viðskiptavinunum, bæði hinum almenna kúnna og einnig stórkaupendum sem stóðu í þeirri trú að þeir væru að bjóða út verkefni á grimmum samkeppnismarkaði. Það sem þeir ekki vissu var að handan við borðið sammæltust fyrirtækin um hvert þeirra ætti að fá verkefnið hverju sinni og hvernig afrakstrinum, þ.e.a.s. ránsfengnum, yrði síðan skipt á milli hinna. Svona fara menn sem sagt að þegar þeir halda um taumana á einokunarmarkaði. Og nú hljótum við að skilja hvers vegna...

1. Nóvember 2004

Þeir eiga þakkir skildar sem sýna málefnalegan áhuga


...Þeir, sem boðið var að heyra röksemdir þeirra, sýndu málinu almennt mikinn áhuga. Utanríkisráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, aðilar á vinnumarkaði, þ.m.t. Verslunarráðið sendu fulltrúa á fundinn enda stórmál sem snertir okkur. Þá voru fulltrúar Evrópusamtakanna og Heimssýnar á svæðinu svo og stjórnmálamenn úr tveimur flokkum, Samfylkingunni og VG. Þingmennirnir tóku virkan þátt í umræðunni og sýndu henni verðugan áhuga. Miklivægt er að íslensk stjórnvöld sýni ekki andvaraleysi í þessu máli og reyndar öllum skuldbindingum okkar á alþjóðavettvangi. Allt of oft hefur það gerst að við fljótum sofandi að feigðarósi, vöknum þá fyrst upp með andfælum þegar allar ákvarðanir hafa verið teknar og allt um garð gengið. Eða skyldu menn hafa gleymt ...

1. Nóvember 2004

Kárahnjúkar og skattborgarinn

Þú segir: "Talið er að fjárfestingin fyrir hvert starf í tengslum við stóriðjuna fyrir austan kosti á bilinu 300 til 500 milljónir króna." Ég spyr því, hvað tekur langan tíma að borga það niður? Þetta er væntanlega tekið af skattpeningum okkar Íslendinga...
Hrafnkell Daníelsson

31. Október 2004

BSRB og Evrópuumræðan

Birtist í Morgunblaðinu 28.10.04.
Í síðustu viku var hér á landi staddur John Monks, forsvarsmaður breska Alþýðusambandsins  en hann er jafnframt forseti ETUC (European Trade Union Confederation), Evrópusambands verkalýðsfélaga. Ég átti ásamt félögum mínum í BSRB og ASÍ góðan viðræðufund með honum. Þar sagði hann að sitt mat á þessari tilskipun væri að hún væri grafalvarleg fyrir velferðarsamfélagið og verkalýðshreyfinguna. Hann sagði að sér hefði komið á óvart hve fljótt tilskipunin hefði runnið í gegnum framkvæmdastjórn ESB. Framundan væri umræða í Evrópuþinginu í nóvember og síðan kæmi málið til kasta Ráðherraráðsins í vor, í mars eða apríl. Hvatti hann til kröftugrar umræðu um málið...

31. Október 2004

Út í hafsauga með frjálshyggjudekur Ingibjargar Sólrúnar

...Ég bæti því svo við að ég er þeirrar skoðunar að það sé ekki nóg að Samfylkingin og Vinstri-grænir vinni saman, heldur vil ég að flokkarnir sameinist. Össur er heiðarlegur jafnaðarmaður á nokkuð góðu pólitísku róli og við róttækir menn í og utan vinstri flokka getum sannarlega unnið með honum. En frjálshyggjuhugmyndir eins og þær sem Ingibjörg S. Gísladóttir er að boða koma algerlega í veg fyrir möguleika á samvinnu á vinstri vængnum...
Magnús Trausti.

31. Október 2004

Á ríkisstjórnina er ekki að stóla

 
Á ríkisstjórn sem er svo óð
enginn skyldi stóla
hún lætur einsog íslensk þjóð
sem ekki fer í skóla.
 
Kristján Hreinsson, skáld
 

28. Október 2004

Er ekki kominn tími til að fara að lesa Tímann Ögmundur?

Þú ert svo upptekinn af þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Einari K. Guðfinnssyni, að þér yfirsjást menn sem þurfa á enn meiri uppfræðslu að halda en jafnvel Einar K. og er þá mikið sagt. Hér er að sjálfsögðu átt við vesalings litlu Framsókn og þá sem ganga á hennar vegum; Framsókn, sem er að burðast við að koma sér upp málgagni, sem hún, í þrá eftir fornri frægð, kallar Tímann. Leiðarahöfundur Tímans, sem lengi vel lét ekki nafns síns getið en hefur nú sett undir leiðara sinn stafina PG, leyfir sér að halda því fram, eins og Einar okkar K. Guðfinnsson, að þú hafir valið sprengjutilræðið í Kabúl " til þess að hreyta ónotum í íslensku friðargæsluna..." í Kabúl.
Ég hef fylgst með...
Sunna Sara

28. Október 2004

EES samningurinn var aldrei mitt ljóð


...Ég skal játa að ég er orðinn þreyttur á að heyra vísað í þennan tíu ára gamla milliríkjasamning sem klassískt listaverk, eins konar Lilju sem allir vildu kveðið hafa. Aldrei var EES samningurinn mitt ljóð. Við skulum hafa það hugfast í þessari umræðu – hver svo sem skoðun okkar á því hvernig  sambandi Íslands við Evrópusambandið skuli háttað -  að það eru til fleiri kostir í stöðunni en tveir og jafnvel þrír...

27. Október 2004

Áhugaverður fundur BSRB um átakamál í Evrópusambandinu

                                                                                                    
Það er samdóma álit forsvarsmanna verkalýðshreyfingarinar að Þjónustutilskipun Evrópusambandsins, sem nú er í smíðum, getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir velferðarþjónustuna í Evrópusambandinu og á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, þar með á Íslandi. BSRB boðar á föstudag til fundar um þessa tilskipun með tveimur hlestu forystukonum EPSU, Samtaka starfsfólks í almannaþjónustu á hinu Evrópska efnahagssvæði. Önnur kvennnanna, Carola Fischbach-Pyttel,  er framkvæmdastjóri EPSU, hin, Anne-Marie Perret, er varaformaður samtakanna.
Með Þjónustutilskipuninni verður...

27. Október 2004

300 milljónir fyrir hvert starf?

Heyði ég rétt á Ísland í bítið í morgun að hvert starf á Austurlandi sem verður til í framhaldi af Kárahnjúkvirkjun kosti um 300 miljónir...?
Michael Jón Clarke

26. Október 2004

Sveinn Aðalsteinsson skrifar: Hvar er launþegahreyfingin?

Það er ekkert lát á góðu fréttunum. Þeir láta ekki einungis að stórum hluta "hanna" bræðsluna á Indlandi, heldur búa þeir sig undir að taka á móti stórum hópi verkafólks. Eru að flytja 900 "bragga" frá Ungverjalandi til Reyðarfjarðar og 200 "bragga" frá Houston í Texas ! Það er greinilega gert ráð fyrir mikilli mannfjölgun á Reyðarfirði. En í hvaða heimi lifa forystumenn launþegahreyfingarinnar? Þeir studdu flestir þessa "stórframkvæmduir, með þeim rökum að um svo mikla atvinnuuppbyggingu yrði að ræða. Ég man að fyrir 2 sumrum voru ca 115 manns á atvinnuleysisskrá á Austurlandi. Nú er talan uþb 100 ...

26. Október 2004

Nýtt braggahverfi?

Sveinn Aðalsteinsson skrifar athyglisverða grein hér á heimasíðuna í dag. Hann færir okkur þær fréttir að á leðinni til landsins séu 1100 braggar, 900 frá Ungverjalandi og 200 frá Houston í Texas. Getur þetta virkilega verið rétt? Eitthvað minnir þetta á Kreppuna á fyrri hluta síðustu aldar nema hvað nú eru braggarnir tákngervingar atvinnustefnu þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur. Atvinnuleysi á Austurlandi er nú svipað og fyrir stóriðjuátak Framsóknarflokksins en inn hafa verið fluttir mörg hundruð fátækir verkamenn sem Alcoa og undirverktakar níðast á með skipulögðum hætti. Og nú eru braggarnir á leðinni til landsins...

26. Október 2004

Er ekki rétt að láta menn njóta sannmælis - jafnvel þótt NATÓ eigi í hlut?

Ástæðan fyrir því að ég sé ástæðu til að taka þetta upp er sú að þrátt fyrir allt ber ég nokkra virðingu fyrir Einari K. Guðfinnssyni og vil því sýna honum þá virðingu að svara honum. Það er rangt hjá honum að ég sé að kasta rýrð á starf Íslendinga í Kabúl. Ég hef jafnan tekið það skýrt fram að Íslendingarnir sem þar starfa við stjórn flugvallarins, hafi að dómi allra þeirra sem ég hef heyrt til, staðið sig mjög vel. Ég hef hins vegar gagnrýnt að ...

25. Október 2004

Powell og Guðfinnsson skýra hernám Afganistans

Í nóvember árið  2001 sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna: "Engir samningar verða gerðir á kostnað afganskra kvenna". Þetta var skömmu eftir að hernaðarárásin var gerð á landið. Powell og aðrir bandarískir ráðamenn voru þá iðnir við að réttlæta árásina í ljósi þess að verið væri að frelsa afganskar konur. Þessu var endurómað á Íslandi og er enn gert. Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hafði þessa skýringu á takteinum í sjónvarpsþættinum Ísland í dag á Stöð tvö í kvöld. Þetta rifjar upp...

24. Október 2004

Í minningu Áslandsskóla

Reynslan er til þess að draga lærdóm af. Er því sammála sveitunga mínum, Hafnfirðingnum, Sáfa varðandi rangar áherslur Samfylkingarinnar í skólamálum. "Framtíðarsýn" er auðvitað öfugmæli. Reynsla segir okkur það með skýrum hætti að þessi stefna er í bókstaflegum skilningi gjaldþrota. Lítil framtíð í því og því betra að líta í smiðjur manna eins og t.d. Olof Palme, fremur en að sækja í úrelta einkvæðingarstefnu til Bretlands...
Árni Guðmundsson

24. Október 2004

Einar K Guðfinnsson missir jafnvægið

Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Einar K. Guðfinnsson, er dagfarsprúður maður. Það hendir þó af og til að tilfinningarnar bera hann ofurliði. Ekkert nema gott um það að segja að menn séu tilfinningaríkir. Hitt er verra þegar óbeislaðir skapsmunir og slæmur málstaður fara saman. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hefur iðulega tekið að sér það hlutverk í seinni tíð að verja hernaðarstefnu Bandaríkjastjórnar og þá ekki síður stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar við hana. Í dag fjölluðu fjölmiðlar um tilræði við íslenska friðargæslumenn í Kabúl. Af þessu tilefni var leitað til ...

23. Október 2004

Út úr skápnum sveitarstjórnarmenn!

Í grein á heimasíðu þinni segir Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi VG að sveitarstjórnarmenn hafi “legið undir nokkru ámæli fyrir athafnaleysi, jafnvel sinnuleysi um velferð þeirra 45 þúsund grunnskólabarna sem enga kennslu fá – og hafa ekki fengið á fimmtu viku.” Ennfremur segir hann að á spjallsíðu vinstri grænna hafi “heyrst hljóð úr horni”, m.a. í sinn garð og annarra sveitarstjórnarmanna úr röðum VG. Og Árna finnst hljóð úr horni eðlilegt “því fimm vikna verkfall allra grunnskólakennara í landinu er grafalvarlegt mál og því von að...
Kveðja, Örnólfur   

22. Október 2004

Sveitarfélögin og ríkið axli ábyrgð - strax!


Kennaraverkfallið dregst enn á langinn og virðist það ætla að standa óhugnanlega lengi í sveitarstjórnarmönnum að koma nægilega til móts við kennara til að leysa deiluna. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, skrifar athyglisverða grein hér á síðuna um þessa deilu, en sem fyrrverandi starfsmaður Kennarasambandsins um árabil þekkir hann í þaula stöðu kennara. Efast ég ekki um að hann beiti sér til lausnar deilunni. Lykilatriði er að sveitarfélögin axli ábyrgð sem atvinnurekendur og geri sér grein fyrir þeim grundvallarsannindum sem Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, hefur hamrað á, að til þess að laða fólk að kennarastarfinu þarf að greiða mannsæmandi laun. Það er sláandi að í atkvæðagreiðslu, sem yfir 90% stéttarinnar tók þátt í voru yfir 90% hlynnt því að fylgja kröfum um betri laun eftir með verkfalli. Þetta segir okkur nokkuð um...

22. Október 2004

Ákall til Samfylkingarinnar: Ekki Blair til Íslands!

Birtist í Morgunblaðinu 21.10.04.
Sl. mánudag greinir Morgunblaðið frá stefnumótunarvinnu Samfylkingarinnar á sviði skólamála. Svokallaður Framtíðarhópur flokksins hafði nýlokið við að boða framtíðarsýn sína í skólamálum. Án efa rak margan í rogastans. Boðað var að flokkurinn tæki einkavæðingu grunnskólans opnum örmum að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Þetta er sama formúla og áður var boðuð í heilbrigðisþjónustunni. Ég fæ ekki betur séð en formúleringin sé sú sama og hjá Sjálfstæðisflokki, sem nú er kominn...

22. Október 2004

Varað við einkaframkvæmd

Sem Samfylkingarmaður og gaflari tek ég heilshugar undir varnaðarorð þín varðandi ýmsar hugmyndir framtíðarnefndar Samfylkingarinnar, einkum það sem snýr að einkaframkvæmdarhugmyndum í heilbrigðis- og menntakerfi.
Sáfi

21. Október 2004

HASLA könnun kynnt

Í gær var kynnt könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Hagrannsóknastofnun launafólks í almannaþjónustu (HASLA). Að Hasla standa BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands og Samband Íslenskra bankamanna. þessi samtök hafa komið sér saman um að vinna að ýmsum hagrannsóknum sem varða hag launafólks. Þetta er fyrsta sameiginlega verkefnið sem Hasla vinnur að. Margar mjög athyglisverðar upplýsingar koma fram í könnuninni. Í ljós kemur að mikill kynbundinn launamunur er hjá hinu opinbera, launaleynd er umtalsverð en að mínu mati þrífst hvers kyns misrétti einmitt í skjóli hennar...Á myndinni er Kristjana Stella Blöndal að kynna könnun Félagsvísindastofnunar.

21. Október 2004

Árni Þór Sigurðsson skrifar: Kennaraverkfallið og sveitarstjórnarmenn

Mikil umræða hefur skapast um kennaraverkfallið og höfum við sveitarstjórnarmenn legið undir nokkru ámæli fyrir athafnaleysi, jafnvel sinnuleysi um velferð þeirra 45 þúsund grunnskólabarna sem enga kennslu fá – og hafa ekki fengið á fimmtu viku.  Á spjallsíðu okkar vinstri grænna hefur heyrst hljóð úr horni, m.a. í minn garð og annarra sveitarstjórnarmanna úr röðum VG.  Þetta er eðlilegt því fimm vikna verkfall allra grunnskólakennara í landinu er grafalvarlegt mál og því von að spurt sé hvað við sveitarstjórnarmenn séum að hugsa.  Af hverju við semjum ekki orðalaust við kennara....Það hefur verið beðið um aðkomu ríkisins.  Ég tel að það sé að vissu leyti tvíeggjað sverð.  Í öllu falli hafna ég algerlega aðkomu ríkisvaldsins í formi lagasetningar og þarf ekki að fjölyrða um það mál.  Ég tel heldur ekki rétt að ...

20. Október 2004

Framtíðarnefnd á leið til fortíðar

Getur verið að Framtíðarnefnd Samfylkingarinnar viti ekki hvað snýr fram og hvað aftur? Fram vísar fram á við en fortíð tilbaka. Og þangað vill Framtíðarnefndin halda. Meira að segja langt aftur í fortíðina. Framtíðarnefndin telur það vera sérstakt framtíðarspor að innleiða markaðslögmál 19. aldarinnar inn í spítalana og skólana.Auðvitað á að setja markaðnum skorður, segir nefndin; en markaðurinn getur stuðlað að "hagfelldari" lausnum segir hún jafnframt. Þetta eru hugtökin. Ekki þykja verkalýðsfélögum í Bretlandi lausnir Tonys Blairs leiðtoga Verkamannaflokksins vera sérstaklega hagfelldar! Í smiðju hans hefur Framtíðarhópur Samfylkingarinnar greinilega leitað...

20. Október 2004

Á Evrópa að verja okkur í stað Bandaríkjanna?

Telur þú að Íslendingar ættu að segja upp varnarsamningnum við USA og leita eftir samvinnu við Evrópuríkin í varnarmálum?...
Jón Sigurður Eyjólfsson

19. Október 2004

Kennaradeilan og sveitarstjórnar-viðundrin

...En nóg um það og aftur að grein Hjörleifs Guttormssonar. Hann minnir á fögur fyrirheit og göfug markmið sem birtust í yfirlýstri stefnu launanefndar sveitarfélaganna frá árinu 2000. Þar vantar sko hvorki fagurgalann né orðaflauminn, enda vanir menn á ferð. Launastefna launanefndarinnar skyldi laða...
Ingólfur

19. Október 2004

Heimasíður VG

Er ekki allt of lítið af því að Vinstri-grænir setji upp heimasíður að mínu áliti eru netföng/heimasíður vinstri grænna allt of lítið auglýst. Með von um virkan framgang Vinstri-Grænna....
Jóhann

19. Október 2004

Misskilningur dómsmálaráðherra leiðréttur

Birtist í Morgunblaðinu 18.10.04.
...Ummæli mín ber ekki að skilja á þann veg að ég óttist að Mannréttindaskrifstofan hverfi frá sjálfstæðri og gagnrýnni nálgun sinni til mála. En raunsæið segir okkur að dómsmálaráðherra sem sker niður framlög til stofnunar, sem haft hefur í frammi gagnrýna afstöðu til lagafrumvarpa, sem hann hefur lagt fram, er ekki líklegur til að styrkja slíka stofnun til frambúðar...

18. Október 2004

Kröftug sveitarstjórnarráðstefna VG

...Einn fundarmanna hafði á orði að ólíkt væri komið fyrir sveitarfélögum annars vegar og fjármálafyrirtækjum hins vegar. Sveitarfélgin bráðvantaði um 5 milljarða til að rétta sig af en það væri minni upphæð en bankarnir hver um sig sýndi í hagnað á hálfu ári. Fyrir fáeinum dögum kom fram í fréttum að greiningardeild Íslandsbanka gerði ráð fyrir að árshagnaður fjármálafyrirtækja á þessu ári verði hátt í 70 milljarðar króna. Bankarnir mala gullið, sem nú streymir til þeirra úr margvíslegu braski heima og heiman. Sveitarfélögin sem annast margvíslega grunnþjónustu, sem er lífsnauðsynleg fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki, berjast hins vegar í bökkum. Er þetta ekki eitthvað öfugsnúið...?   

18. Október 2004

Ómálefnaleg gagnrýni á Ingibjörgu

...Nei, Ögmundur, ég held þú ættir að hætta meðalmennsku- og aumingjadýrkuninni og viðurkenna þá staðreynd að það eru fyrst og síðast öflugir einstaklingar, hinir fáu guðs útvöldu leiðtogar, sem skipta sköpum í framvindu samfélagsins. Það eru þeir sem toga framtakslausan almenninginn með sér áfram veginn – með góðu eða illu – og ætíð til betra lífs. Og á meðal þessara ofureinstaklinga er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Og af hverju í ósköpunum má hún ekki gangast við því?
Jón Jónsson krati, Ísafirði

18. Október 2004

Um "öfluga " foringja

...Ég segi einsog Lóa lesandi að það fór um mig ónotahrollur þegar ég horfði á Ingibjörgu Sólrúnu þenja sig í Silfri Egils. Jú, hún komst ekki hjá því að gefa Össuri Skarphéðinssyni þá einkunn að hann væri góður foringi, sem mér finnst hann í vaxandi mæli vera. En, hún þurfti að tvítaka að Samfylkingin væri sterkur flokkur af því þar væru tveir öflugir foringjar, hún og Össur. Orðrétt sagði hún: "...öflugir leiðtogar einsog ég..." Össur er að verða...
E. Equus

17. Október 2004

Hlýjar kveðjur frá Össuri

Á flokksstjórnarráðstefnu Samfylkingarinnar nú um helgina sendi Össur Skarphéðinsson,  formaður þess flokks, stjórnarandstöðunni hlýjar kveðjur - og raunsæjar - mjög í anda þess sem Vinstrihreyfingin grænt framboð sagði fyrir síðustu Alþingiskosningar. Batnandi mönnum er best að lifa. Þetta sagði Össur m.a.: "Við þessar aðstæður er hlutverk stjórnarandstöðunnar mikilvægara en endranær. Við þurfum að leggja okkur enn frekar fram en áður um að endurheimta þann mannleika...

17. Október 2004

'Eg er öflugur leiðtogi"

Í Silfri Egils í dag sat Ingibjörg Sólrún Gísladótir fyrir svörum á meðal annarra. Oft hef ég verið ánægð með ISG en sannast sagna sökk ég niður í sætið eftir því sem leið á viðtalið. Barátta vinstri manna hélt ég að gengi út að að lemja niður foringjadýrkun og oflátungshátt. Þegar Ingibjörg Sólrún sagði að Samfylkingin hefði sterka leiðtoga, Össur værui öflugur og hún sjálf aldeilis frábær, "ég er öflugur leiðtogi", þá var mér allri lokið. Ögmundur er ég ein um þetta viðhorf....?
Lóa

16. Október 2004

Hallarbylting peningavaldsins

Birtist í Morgunblaðinu 15.10.04.
...Í vikunni sáum við Björgólf Guðmundsson rétta forsvarsmönnum Sinfóníuhljómsveitar Íslands tékka upp á 25 milljónir króna. Eftir því sem fyrirtækin stækka taka þau meiri þátt í menningunni, sagði stjórnarformaður hins einkavædda Landsbanka við þetta tækifæri...Það er kannski ástæða til að taka það fram, að tilefni þessara skrifa er ekki að agnúast út í kapitalistana, allra síst þegar þeir vilja láta gott af sér leiða eins og Björgólfur Guðmundsson augljóslega vill, heldur hina sem ganga erinda þeirra á Alþingi og í Stjórnarráðinu. Engan hef ég heyrt mæla...

16. Október 2004

Sammála Garra um þjóðsönginn

Hjartanlega er ég sammála Garra í lesendabréfi hér á síðunni um að láta fara fram "þjóðarblómsatkvæðagreiðslu" um þjóðsönginn. Atkvæðagreiðslan um þjóðarblómið er frábær hugmynd og skal ég glöð una hverjum þeim úrslitum sem meirihlutinn skilar okkur. Þetta er ágæt æfing í lýðræðinu. Mjög margir vilja breyta um þjóðsöng, finnst þjóðsöngurinn of trúarlegur. Þannig spyr Garri þig í lesendabréfinu Ögmundur: "Ert þú á þeirri skoðun að það ætti að skipta um þjóðsöng eða ekki? Samrýmist það trúfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar að hafa svona trúarlegan söng og er þetta ekki nokkuð langt frá sósíalískri jafnréttishugsun, þetta yfirstéttarkjaftæði úr honum Matthíasi gamla...
Sunna Sara 

15. Október 2004

R-listinn og kjarabarátta kennara

...Mér finnst kominn tími til að R-listafólkið í borgarstjórn Reykjavíkur hysji nú rækilega upp um sig brækurnar. Væri þá vænlegt að hefja upphysjunarstarfið á því að bjóða kennurum möglunarlaust upp á mannsæmandi kjör. Ástandið eins og það er í dag er orðið óþolandi fyrir nemendur, aðstandendur þeirra, sem og auðvitað kennara. Og ábyrgðin á þeim skemmdarverkum sem nú er verið að vinna á skólastarfinu í landinu verður ekki með neinum sanngjörnum hætti skrifuð á aðra en sveitarstjórnarmenn. Þá staðreynd ættu R-listamenn að íhuga vandlega áður en ...
Þjóðólfur

14. Október 2004

Þjóðarblómsatkvæðagreiðslu um þjóðsönginn!

Undirritaðan, Garra, hefur lengi langað til að vita afstöðu þina Ögmundur til íslenska þjóðsöngsins. Ert þú á þeirri skoðun að það ætti að skipta um þjóðsöng eða ekki? Samrýmist það trúfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar að hafa svona trúarlegan söng og er þetta ekki nokkuð langt frá sósíalískri jafnréttishugsun, þetta yfirstéttarkjaftæði úr honum Matthíasi gamla svo ágætur sem hann var? Hvað með að hafa svona þjóðarblóms könnun um nýjan þjóðsöng og þá meina ég bæði ...
Garri

14. Október 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Dagar Halldórs og okkar hinna

Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég grein, sem birtist hér á vefnum, um þá hugmynd að einhverskonar vinstri dagar kynnu að renna upp hjá Halldóri Ásgrímssyni með haustinu. Ég játa að hugmyndin var í hæsta máta einkennileg og til vitnis um afar gamaldags skilning á Framsóknarþankagangi. Maður ólst upp við að Framsókn þreyttist annað slagið á nánu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, í flokknum væru alltaf einhverjir tiltölulega vinstri sinnaðir hópar sem vildu til dæmis ekki ganga of langt í að skerða velferðarkerfið og í eldri-gamladaga voru meira að segja hópar í flokknum sem voru harðir andstæðingar bandarískrar hersetu á Íslandi. Þessi sýn á flokkinn...

14. Október 2004

Öryggi Íslands ógnað

...Undarlegt andvaraleysi er hins vegar hjá þessum sömu aðilum þegar raunveruleg ógn við öryggi landsins blasir við. Sjö rússnesk herskip hafa nú í rúma viku haldið til við Þistilfjörð, rétt utan tólf mílna landhelginnar. DV hefur í dag eftir sérfræðingi í rússneska flotanum, Nick Brown, (hjá Jane´s Information Group) að líklegt sé að eitt skipanna, beitiskipið Pyotr Velikiy, sé bilað. Skipið sé kjarnorkuknúið og hugsanlega með kjarnorkuvopn um borð. Í blaðinu er vitnað í talsmenn rússneska hersins sem sagt hafi að skipið sé nánast eins og ruslahaugur, kjarnaofninn hugsanlega í ólagi og að raunveruleg hætta sé á því að skipið gæti sprungið í loft upp...

13. Október 2004

Vill Björn Bjarnason miðstýra mannréttindabaráttunni?

Birtist í Morgunblaðinu 12.10.04.
...Ef þessi nýskipan nær fram að ganga hefur stjórnin eftir sem áður þetta á sinni könnu en við val á verkefnum þarf hún nú að taka tillit til eins atriðis sem hún þurfti ekki áður að huga að: Nú þurfa verkefnin að falla í kramið hjá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. Er þetta heppilegt fyrirkomulag? Í miðstýrðu lögregluríki þætti þetta eflaust eftirsóknarvert. Í opnu lýðræðisþjóðfélagi er þetta talið afleitt. Í hvora áttina ætlar dómsmálaráðherrann að ganga, í átt til opins þjóðfélags eða lokaðs? Í hvernig þjóðfélagi vill Björn Bjarnason búa...?

11. Október 2004

Hvers vegna má Íslandsbanki ekki yfirborga - og hvað með Landakot?

Sæll Ögmundur og þakka svarið.
Það sem liggur í báðum spurningum mínum er þetta tvennt, hvernig tryggjum við börnunum lögbundinn rétt til kennslu eða menntunar og hvernig tryggjum við að efnahagslegar afleiðingar verkfallsins bitni ekki á foreldrum sem eru illa staddir peningalega, sem geta ekki fengið að vinna heima og sem neyðast til að greiða verulegar upphæðir fyrir gæslu barna á meðan þau fá ekki kennslu í skólunum. Sé verkfallið launadeila þá hlýt ég að gera ráð fyrir að verkfallið hafi þau áhrif að sveitarfélagið sjái sér hag í að...Leiði verkfallið til þess að foreldrar verða opnari fyrir skólagjöldum hvað væri þá athugavert við að til dæmis Íslandsbanki ræki sérstakan grunnskóla, yfirborgaði kennara með skólagjöldum foreldra og eigin framlagi til menntunar barna starfsmanna sinna...
Ólína

11. Október 2004

Þjóðarblómið

Skemmtileg er sú hugmynd að láta kjósa um þjóðarblóm. Verst er að almennt er fólk ekki búið að átta sig á að atkvæðagreiðslan stendur yfir einmitt nú og fáir dagar til stefnu eða fram til 15. október. Valið stendur á milli sjö blóma sem eru: Blágresi, Blóðberg, Geldingahnappur, Gleym-mér-ei, Holtasóley, Lambagras og Hrafnafífa eða Fífa eins og hún yfirleitt er kölluð. Það er ásæða til að hvetja fólk til þátttöku og verð ég að segja að öll þau blóm sem komin eru í "undanúrslit" eru að mínu mati verðug til að verða þjóðarblóm okkar. Fyrir mitt leyti hef ég komist að niðurstöðu. Niðurstaðan varð Fífa. Að hún  yrði fyrir valinu hjá mér hefði ég ekki trúað að óreyndu. Ég hef þegar kosið Fífuna og lét þar stjórnast af röksemdum Rögnu S. Sveinsdóttur í grein hennar í Morgunblaðinu nýlega....

11. Október 2004

Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: Hvað kaus Bin Laden?

Ég las það í Mogganum að til stæði að fjölga í “íslensku friðargæslunni” í Afganistan upp í 50. Bandaríkjamenn eru 1000 sinnum fleiri en við. Samkvæmt bandarískri stærðargráðu værum við því að senda 50 000 manna herlið til Afganistan. Ekki eru viðbrögð fjölmiðla í samræmi við þetta...Annars er ég búinn að vera veikur og þar af leiðandi ekki fylgst nógu vel með. Sérstaklega þykir mér hart að hafa ekki getað fylgst með lýðræðisvakningunni í Afganistan. Þó náði ég því að allir frambjóðendur í forsetakosningunum utan einn drógu framboð sitt til baka vegna ásakana um  kosningasvindl. ...En hver skyldi óvænt kominn til Íraks, einnig samkvæmt fréttatíma Ríkisútvarpsins í morgun? Enginn annar en  ...

10. Október 2004

Rétturinn til náms og alls ekki jafnrétti til náms

... Og hér spyr ég um áhrif ungu konunnar sem er eftirlætisleikfang glanstímaritanna en hún hefur nákvæmlega ekkert fram að færa í þessari deilu. Konan er titluð menntamálaráðherra. Hún hefur það hlutverk að ...Að lokum tvær spurningar Ögmundur í ljósi þess sem sagt er hér að ofan: Finnst þér rétt að kennarar hafi verkfallsrétt sem byggist á að börnin eru tekin sem gíslar? Finnst þér koma til greina að sveitarfélögin styrki skólarekstur á vegum foreldra eða fyrirtækja sem tækju að sér að ...
Ólína

10. Október 2004

Einstaklingsbundnir lífeyrisreikningar?

Hvenær byrjar baráttan fyrir því að allar lífeyrisgreiðslur fari inn á bankabók viðkomandi einstaklings...?
Jón Gústafsson

8. Október 2004

Fátæku fólki til viðvörunar?

Hvað er eiginlega að gerast hjá Reykjavíkurborg? Í myrkri fortíð voru lögbrjótar hengdir öðum til viðvörunar. Nú er að verða daglegt brauð í borginni að fátækt fólk sé borið út úr íbúðarhúsnæði með lögregluvaldi, sbr. frétt DV í gær; og gleymum ekki að fólkið er borið út úr félagslegu íbúðarhúsnæði í eigu borgarinna! Er þetta gert fátæku vanskilafólki til viðvörunar? Er þetta ef til vill ný innheimtuaðferð hjá Reykjavíkurborg? Þegar öryrkinn var borinn út fyrir stuttu síðan ...
Hafsteinn Orrason

7. Október 2004

Heimilið á að vera helgur reitur

...Bréfið frá Lögheimtunni var ekki langt en þar var skýrt kveðið að orði. Þar sagði, "Er yður hér með gert að rýma íbúðina innan 7 daga. Ef þér hafið ekki rýmt íbúðina fyrir þann tíma verður leitað atbeina dómstóla um útburð." Ég skal játa að á lífsleiðinni hef ég stundum skuldað hærri upphæðir en þessi hjón. En aldrei hef ég staðið frammi fyrir því að vera hótað að verða sviptur heimili mínu með aðstoð dómsvalds. Ég held að maður þurfi að upplifa þetta sjálfur til að skilja tilfinninguna til fulls. En er þetta ekki farið að minna óþægilega mikið á þá gömlu daga er Bogesen réð lögum og lofum og ómagar og fátækt fólk var með öllu réttlaust? ...

5. Október 2004

Elías Davíðsson skrifar: Hverjir stóðu að árásunum 11. september 2001?

Í fjöldamorðunum þann 11. september 2001 dóu tæplega 3000 manns. Þessi fjöldamorð, þau mestu í nútímasögu Bandaríkjanna, vöktu réttmætan óhug um allan heim og kölluðu fram mikla samúð við syrgjendur og við bandarísku þjóðina. Þótt engin samtök hefðu lýst sig ábyrg fyrir þessum fjöldamorðum, kappkostuðu stjórnvöld og þingmenn Bandaríkjanna að kenna Al Qaeda samtökunum og Osama bin Laden um verknaðinn. Margir hafa - af skiljanlegum ástæðum - treyst opinberri frásögn bandarískra yfirvalda um atburðarásina og um meinta aðild Osama Bin Laden að fjöldamorðunum. Fjölmiðlar, sem byggðu frásagnir sínar aðallega á upplýsingum frá alríkislögreglunni (FBI) í Bandaríkjunum, gátu að sjálfsögðu ekki sannreynt heimildir sínar en miðluðu tilkynningar FBI nær gagnrýnislaust. Okkur var því sagt að þann dag hafi...

4. Október 2004

Söguleg þingsetning

Setning Alþingis að þessu sinni varð söguleg að því leyti að stór hluti stjórnarandstöðunnar gekk á dyr undir ræðu forseta þingsins. Halldór Blöndal, þingforseti, lagði út af atburðum sumarsins, fjölmiðlalögunum, ákvörðun forseta Íslands að skrifa ekki undir lögin og vísa afgreiðslu þeirra til þjóðarinnar. Forseta Alþingis var misboðið og kvaðst hann hafa ákveðið að taka upp merki Alþingis, það væri beinlínis skylda sín. Hann fékk stuðning Morgunblaðsins í leiðara daginn eftir...

Þegar inn í þinghúsið kom, undir óþægilega miklum (og vaxandi?) honnör og hælasmellum minna annars prýðilegu lögreglufélaga í BSRB,  hóf forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, upp raustu sína. Ræða hans var ágæt en hún fjallaði um loftslagsbreytingar, svokölluð gróðurhúsaáhrif, og hugsanlegar félagslegar afleiðingar þeirra. En formálinn – áður en að þessu kom -  var pólitískur og ekki var það mín pólitík. Ólafur Ragnar gaf Davíð Oddssyni þá einkunn að...

3. Október 2004

Fasisti í framboði

...Mér er heitt í hamsi þegar ég slæ þessi orð inn í tölvuna. Ég var nefnilega að lesa viðtal við íraska konu, Huda Alazawi að nafni. Hún hefur sagt frá reynslu sinni í fangavist bandarískra hermanna í Írak. Hún er nýlega laus úr fangelsi en tveir bræður hennar eru enn í haldi. Einn bræðranna myrtu bandarísku hermenninrnir eftir grimmilegar pyntingar. Minnumst þessa næst þegar Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson segja hve gott það hafi verið að losna við Saddam Hussein. Eflaust var það gott en ekki er það betra hlutskipti að fá þá félaga Bush, Blair og litlu kallana okkar yfir sig; mennina sem veita sadistum í íröskum fangelsum skjól...

3. Október 2004

Minjagripagerð forseta Íslands

Það vakti athygli mína að forseti Íslands skyldi á hátíðarstundu velja sér þemað að mæra forystumenn stjórnarflokkanna. Mér fannst óviðeigandi að gera þá að einhverjum sérstökum þjóðlegum minjagripum á hátíðarstundu Alþingis. Það hefði farið betur á að gera þetta á árshátíð stjórnarráðsins, eða í einu af lokuðu partíunum sem haldin eru í Bessastaðahreppi. Það eru nefnilega að minnsta kosti tvær hliðar á þeim gljáfægða gullpeningi sem forseti dró úr pússi sínu í ávarpi sínu til þjóðarinnar 1. október 2004. Víst hefur samfélagið breyst og vissulega ...
Stefán

2. Október 2004

Fautinn Halldór

...Það hefði staðið Halldóri nær, þingræðissinnanum sem hann þykist vera, að fjalla um gloppuna í þingskaparlögunum sem fram er komin með því að Kristinn H. Gunnarsson er sviptur stórum hluta löggjafarvaldsins sem kjósendur hans færðu honum. Fautaskapurinn ætti að verða til þess að þingskaparlögum verður breytt í snarheitum. Hvernig stóð á því Ögmundur að ykkur stjórnarandstæðingum datt ekki í hug sem alþingismönnum að tryggja þingmanninum réttinn sem hann, og kjósendur hans, hafa samkvæmt stjórnarskrá og kosningalögum? Þetta hefðuð þið átt að gera að meginmáli útgöngunnar í gær, en láta drullukökubakstur Halldórs sem vind um eyrun þjóta...
Ólína

1. Október 2004

Gildir það líka í Framsókn, Geir?

Geir H Haarde, fjármálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sat undir nokkurri orrahríð eftir að hann skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson í stöðu hæstaréttardómara. Geir sagði við það tækifæri að hann kippti sér ekki upp við þessa gagnrýni enda næðu menn ekki langt í stjórnmálum ef þeir ekki þyrðu að standa á sannfæringu sinni. Er það virkilega svo í Sjálfstæðisflokknum að vísasta leiðin til að ná frama í þeim flokki sé að segja aldrei skilið við hugsjónir og sannfæringu? Er þetta kannski líka reglan í Framsóknarflokknum? Höfðu menn þar á bæ ef til vill áhyggjur af því að hugsjónaeldurinn í Kristni H. Gunnarssyni væri að kulna og þess vegna gæti hann ekki lengur sinnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn?

29. September 2004

Illa farið með valdið

Ég get ekki orða bundist. Þegar Björn Bjarnason réð Ólaf Börk við Hæstarétt þótti mörgum illa farið með valdið. Er það ekki að sýna sig núna? Getum við treyst Hæstarétti héðan í frá...
Heiðrún Janusardóttir

29. September 2004

Nú er komið að byltingunni

Þegar við bændur komun saman úr réttum í dag voru fréttir ekki góðar. Kiddi sleggja rekinn úr nefndum. Íhaldið komið með meirihluta í Hæstarétti. Meðan kerlingarnar voru að hella upp á kaffið komumst við bændur að því, að nú væri komið að byltingunni. Íhaldið væri komið með bæði framkvæmdavaldið, dómsvaldið og meirihluta á þingi með hjálp Framsóknar. Viti menn kerlingarnar  komu með kaffið og í þetta sinn ...
Runki frá Snotru 

28. September 2004

Ásmundur og sparigrísinn

Einhver skemmtilegasti morgunverðarfundur sem ég hef lengi sótt var haldinn í morgun á Grand Hótel í Reykjavík á vegum Tryggingastofnunar ríkisins. Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari, tróð upp nánast eins og poppstjarna við góðar undirtektir. Fagnaðarerindi Ásmundar var þvert á það sem legið hefur í loftinu um framtíð aldraðra. Samkvæmt útreikningum hans yrðu þeir ekki baggi á samfélaginu. Öðru nær! Framtíð aldraðra er björt í framtíðarboðskap Ásmundar Stefánssonar. Þessu veldur lífeyriskerfi Íslendinga sem byggir á kröftugri ...

28. September 2004

Kjósendum Framsóknar til umhugsunar - eða hvað?

Nú erum við endanlega búin að fá það svart á hvítu hvernig lýðræðinu er fyrirkomið í Framsókn. Kristinn H. Gunnarsson, sem sýnt hefur sjálfstæðistilburði í fjölmiðlamáli og öðrum málum, er rekinn úr öllum nefndum þingsins þar sem hann hefir gegnt trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn. Ég tel að Kristinn hafi staðið nær kjósendum Framsóknar en...
Hafsteinn Orrason

27. September 2004

Eru fréttamenn Ríkisútvarpsins í álögum?

Fjárfesting Símans í Skjá einum hefur vakið athygli og viðbrögð. Fyrir fáeinum dögum sat stjórnarformaður Símans, Rannveig Rist, fyrir svörum um þetta efni í Kastljósi Sjónvarps. Hún kvað það vera eðlilega fjárfestingu fyrir símafyrirtæki sem vildi tryggja flutning um dreifikerfi sem það hefði upp á að bjóða að fjárfesta í sjónvarpsstöð. Ekki var hún þó að öllu leyti fjarri hugleiðingum Markúsar Arnar Antonssonar, útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, sem fram komu í viðtali við Fréttablaðið sl. sunnudag. Rannveig sagði nefnilega að ekki vekti fyrir Símanum að...

27. September 2004

Hverjir eiga að sjá um varnir Íslands?

1. ,,Ísland getur ekki lengur treyst á að Bandaríkin verji landið og verður því að snúa sér í auknum mæli til Evrópu til að tryggja öryggi landsins”. Getur þú rökstutt afstöðu þína til þessarar fullyrðingar?  2. Hverjir eiga að sjá um varnir Íslands...
Jón Sigurður Eyjólfsson

27. September 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Megum við þýða Harry Potter?

...Drífa Snædal telur að draga muni úr þrýstingi á sveitastjórnarmenn að semja, ef kennarar eru ekki nógu harðir á svona hlutum. Þetta held ég að sé misskilningur. Þrýstingur foreldra á sveitarstjórnir er mjög mikill og eykst með hverjum deginum. Hann kemur að sönnu ekki fram í fjöldamótmælum eða öðru slíku en hann blasir eigi að síður við. Sveitarstjórnarmenn vita ósköp vel að þeir bera ábyrgð á menntun grunnskólabarna og að þeir fá yfir sig allskonar klúður á heimavelli ef verkfallið dregst á langinn. Haldi kennarar ekki skynsamlega á málum úti í samfélaginu, kemur það á hinn bóginn harkalega í bakið á samtökum þeirra, jafnvel í mörg ár. Foreldrar, sem verða að skipuleggja tíma sinn og barnanna uppá nýtt, geta ósköp einfaldlega ...

25. September 2004

Áfellisdómur yfir einkavæðingu

Sænska Samkeppnisstofnunin hefur gefið út skýrslu um afleiðingar markaðsvæðingar í Svíþjóð. Skýrsluna er að finna á vef BSRB undir erlendu efni. Fyrirsögnin á þessari frétt BSRB er "Frjálsar" verðhækkanir í Svíþjóð. Inngangur fylgir af hálfu BSRB þar sem saman eru teknar niðurstöður skýrslunnar. Þær hljóta að túlkast sem hrikalegur áfellisdómur á einkavæðingarstefnuna í Svíþjóð. Það er full ástæða til að hvetja fólk til að kynna sér efni þessarar skýrslu...

24. September 2004

Hamingjuóskir til Ólympíumeistara

  ...má segja að Kristín Rós Hákonardóttir, Jón Oddur Halldórsson og fleiri, sem nú síðustu daga hafa gert garðinn frægan á Ólympíuleikum fatlaðara íþróttamanna í Aþenu, hafi   bætt um betur. Þau hafa unnið mikla sigra í sínum greinum, Kristín Rós bætti eigið heimsmet, vann gull og silfur og Jón Oddur vann til silfurverðlauna. Þetta á eflaust eftir að verða mörgu ungu fólki hvatning. En það sem meira er: Þetta á eftir að hvetja fatlað fólk til dáða. Þeir sem búa við fötlun þurfa að leggja harðar að sér en aðrir og eiga þeir aðdáun og lof skilið... 

21. September 2004

Hrindum aðför útvegsmanna að verkalýðshreyfingunni


...Það bar nokkuð á því fyrir áratug eða svo að ungir frjálshyggjumenn hvettu til atlögu gegn starfsemi verkalýðsfélaga og vildu þau helst feig. Síðan hefur slík skemmdarstarfsemi legið í láginni. Nú er hins vegar greinilega hafin skipuleg sókn gegn starfsemi verkalýðsfélaga og er það LÍÚ sem ríður á vaðið. Öflug verkalýðshreyfing er mótvægi gegn fjármagnsöflunum og það er samstöðu innan hennar að þakka að ekki er valtað yfir launafólk, ekki bara í kjarasamningum heldur á vinnustöðum dag hvern og í almennum samskiptum í landinu. Það er þessari sömu samstöðu að þakka að tekist hefur að byggja hér upp velferðarþjóðfélag... Aðför útvegsmanna að sjómönnum er ekki aðeins stefnt gegn sjómönnum heldur öllu launafólki í landinu....

20. September 2004

Drífa Snædal skrifar: Verkföll eiga að bitna á sem flestum

Jæja, byrja gömlu lummurnar – verkfallsvopnið er úrelt baráttutæki. Sveitarfélögin fara á hausinn ef gengið verður að kröfum kennara og yfirlýsing frá Seðlabanka Íslands og Hagfræðistofnun Háskólans um að alls ekki megi auka opinber útgjöld. Kennarar hafa það á samviskunni að grunnskólanemendur leggist í ólifnað og gott ef þau verði ekki fíkniefnaneytendur upp til hópa. Í samfélagi þar sem öll eiga að vera sjáfum sér næst er samtakamáttur ógn og ég tala nú ekki um þegar opinbert starfsfólk heimtar hluta af góðærinu. Það er ekkert sérstaklega trúverðugt að á sama tíma og talað er um skattalækkanir barma stjórnvöld sér mikið undan ...

20. September 2004

Er skynsamlegt að selja Símann ?

...Eigendum þessara samfélagslegu stoðkerfa, s.s. línulagna rafmagns, síma o.sv.frv. hefur aldrei verið gerð viðhlítandi grein fyrir í hverju hagur til frambúðar er fólginn í að láta slík einstök kerfi af hendi til einkaaðila og verða þar með háðir einokunaraðstöðu þeirra. Þetta hefur verið reynt vítt og breitt um heiminn á undanförnum árum, undantekningarlaust með þeim afleiðingum að verð til almennings hefur rokið upp! Það sem er merkilegast við ofanskráð svar fjármálaráðherra er einkum tvennt : Í fyrsta lagi telur hann skynsamlegt fyrir eigendurna, almenning að selja sameiginlegt fyrirtæki sem árum saman hefur skilað um 40% hagnaði fyrir afskriftir til að borga niður skuldir sem nú bera um eða innan við 1% ársvexti! Í öðru lagi er eins og fram kemur í svari hans, alls óvíst hvað tekur við eftir sölu Símans...
Ísmann  

19. September 2004

Forsætisráðherrar með afslætti – en á kostnað skattborgarans

...Til að undirstrika hve mikilvægur síðasti kafli bókarinnar er var útgáfudagur hennar síðasti setudagur Davíðs Oddssonar á stóli forsætisráherra. Að sjálfsögðu var smalað í Þjóðmenningarhúsið til að klappa. Sese Mobutu Seko hefði ekki gert þetta betur þegar hann var upp á sitt besta í Zaire á sínum tíma...

19. September 2004

Þarf ekki að kynna samninganefnd sveitarfélaganna fyrir Gunnari Birgissyni?

Í Kastljósi í kvöld kvaðst Gunnar Birgisson, alþingismaður og formaður menntamálanefndar Alþingis, vera meðmæltur því að kennarar hefðu mjög góð laun og hann hefði ekki hitt nokkurn mann sem væri annarrar skoðunar en að bæta þyrfti laun kennara. Ég vona að ég sé ekki að leggja Gunnari röng orð í munn en svona skildi ég inntakið í því sem hann sagði. Þá vaknaði sú spurning í mínum huga...
Kennari

17. September 2004

Horfum til framtíðar

Það er ekki hvinur eins og í haustlaufi. Það er einkennilegur hvinur, harður og málmkenndur, ógnvekjandi. Hann er engu líkur og eins og af öðrum heimi. Svo ærist allt. Hversdagurinn breytist í helvíti af allt öðrum heimi. Vígamenn, karlar, konur, gamalmenni og börn. Þú rankar við þér með innyfli annars manns um hálsinn, ataður blóði, með vitin full af sandi og ryki og svo finnurðu fnykinn af sviðnu holdi, mannsholdi. Ef þú hefðir verið með kveikt á stuttbylgjuútvarpsviðtæki á fréttatíma íslensku ljósvakamiðlanna og ef þú skildir íslensku þá hefðirðu heyrt í nýbökuðum forsætisráðherra Íslands ...
Stefán

16. September 2004

Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: Fréttaflutningur á “kúbunni”

Í vikunni gafst prýðilegt tækifæri til að kynnast pólitískum þankagangi Ólafs Sigurðssonar og félaga á Sjónvarpinu. Frá því var greint að fellibylurinn Ivan grimmi stefndi á Kúbu. Nú bar vel í veiði enda fylgdu nákvæmar lýsingar á hve húsakostur væri bágborinn á Kúbu. Húsum á hinni sósíalísku Kúbu væri illa viðhaldið og því búist við miklu tjóni. Það var fremur létt yfir þeim sjónvarpsmönnum þegar þeir lýstu því fyrir okkur hve Kúba væri illa í stakk búin til að taka á móti Ívan grimma. Ekki varð ...

15. September 2004

Herþotur í lágflugi

...Var Davíð ekki að minnast á viðtal sitt við “Colin” í fréttum í gær?  Hvað fór þeim á milli? Skildu þeir fyllilega hvor annan? Kann ekki að vera að einhverjir tungumálaörðuleikar hafi orðið til þess, að Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi virkilega trúað því að Davíð væri á hrakhólum og þyrfti á mórölskum stuðningi að halda...
Ísmann

15. September 2004

ÞEGAR SKEPNAN DEYR

Blóði drifin, hölt og hörundsár
húkir skepna ein við nyrstu myrkur,
boðar ófrið, örbirgð, feigð og fár,
fólksins eymd er hannar mikli styrkur.
Kristján Hreinsson, skáld

15. September 2004

Hjartnæmur fréttatími

Hann var hjartnæmur fréttatíminn í ríkissjónvarpinu í gær, 14. september. Hann hófst með langri umfjöllun um embættislok Davíðs Oddssonar. Allt var það í léttum tóni, hann var sáttur við sín störf, talaði svona eins og roskinn og reyndur stjórnmálamaður sem getur litið yfir farsælan feril, svolítill heilsubrestur, en hann gerir samt að gamni sínu, þetta gengur allt bara bærilega, þeir hafa jú lent í veikindum líka Halldór Ásgrímsson og Colin Powell, já, vel á minnst, Colin Powell. Þeir spjalla stundum saman í síma og það ....
Einar

14. September 2004

Er þessum mönnum ekkert heilagt?

Þegar hin hryllilegu fjöldamorð voru framin í Beslan í Rússlandi fyrir fáeinum dögum mótmælti heimurinn nánast einum rómi. Bush Bandaríkjaforseti notaði stór orð og utanríkisráðherra Íslands spurði hvort þessum mönnum væri ekkert heilagt. Almennnigur á Íslandi kveikti friðarljós sem loguðu í gluggum nóttina eftir að ódæðið var framið. Sjálfur var ég í þeim hópi. Ef menn gætu nú verið örlítið sjálfum sér samkvæmir í samúð með fórnarlömbum hernaðarofbeldis. Báðir ...
Hafsteinn Orrason

14. September 2004

Samfylkingin í Hafnarfirði og einkavæðingin

...Síðan segir formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar: "Mér finnst ekki viðeigandi að bæjarfélag standi með óbeinum hætti að svo víðtækum uppsögnum eins og hér verður um að ræða og það er ekki hægt að skýla sér bak við eitthvað fyrirtæki út í bæ í þeim efnum. Hafnarfjarðabær er verkkaupi og ber auðvitað sem slíkur siðferðilegar skyldur á gerðum verktakans."  Undir þessi ummæli skal hjartanlega tekið. Einkavæðing ræstinga hefur nánast alltaf leitt af sér fækkun starfsmanna, meira álag og minna kaup. Þess vegna er ádrepa formanns Starfsmannafélags Hafnarfjarðar fullkomlega réttmæt og fráleitt annað ...

13. September 2004

" Orð skulu standa"

...NÚ ER SEMSAGT ENDANLEGA LJÓST HVER RÉÐI ÞVÍ AÐ SAMKOMULAG VIÐ ÖRYRKJA VAR EKKI EFNT OG EKKI STENDUR TIL AÐ GERA ÞAÐ !
Ætlar  Halldór Ásgrímsson að láta það verða eitt af fyrstu verkum sínum sem forsætisráðherra að lýsa því formlega yfir, að samkomulag Jóns Kristjánssonar við Öryrkjabandalagið hafi verið “kosningabrella”, sem ekki standi til að efna  að fullu ?...
 Ísmann

13. September 2004

Um mann og stól

Og er þá komið að því að spyrja hvort það skipti einhverju máli að þeir víxli stólum Davíð og Halldór? Í öllum höfuðdráttum skiptir þetta engu meginmáli. Ef Halldór Ásgrímsson hefði verið félagshyggjumaður eins og ýmsir fyrri formenn flokksins hefðu spennandi tímar verið í vændum. Það eina sem í raun vekur spurningar er hvernig Sjálfstæðisflokknum muni takast að nýta sér ást Halldórs á stól forsætisráðherra. Því er ekki að leyna að nokkurn óhug setur að mönnum yfir því hve  langt Halldór Ásgrímsson hefur verið reiðubúinn að ganga til að komast í stól forsætisráðherra. Yfirlýsingar hans um Evrópusambandið nú síðustu daga eru án efa ...

13. September 2004

Ég þekki til útburðarmála

Ég vil þakka þér fyrir að rísa upp gegn því að efnalítill maður yrði borinn út úr húsnæði borgarinnar. Ég heyri hvernig menn eru farnir að hamast á þér fyrir vikið og er gefið í skyn að þú viljir misrétti í kerfinu!!! Mér þótti skýringin sem þú gefur á þessum málum í greininni um Félagsþjónustuna hér á síðunni, Okkur ber skylda til að veita aðhald, segja allt sem segja þarf í þessu máli. Ég vona að sem flestir ...
Sigrún.  

12. September 2004

Þyrftu póltíkusar að vera betur að sér í hagfræði?

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, brást fremur önuglega við þeim ummælum Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands að skera þurfi niður ríkisútgjöld til að mæta boðuðum skattalækkunum og að rétt væri að líta þar sérstaklega til utanríkisþjónustunnar. Þetta er fullkomlega réttmætt sjónarmið hjá Tryggva Þór og ekkert við það að athuga að hann viðri þessa skoðun sína. En af þessu tilefni sagði Halldór Ásgrímsson (sjá Mbl. 11.sept): "Ég ætla að biðja hagfræðinga um eitt: að vera frekar í hagfræði en pólitík". Og utanríkisráðherra sagði að...

12. September 2004

Gerum 9/11 að alþjóðlegum minningardegi

Grein sem birtist í gær 9/11 í Theran Times er merkileg fyrir ýmissa hluta sakir og þá sérstaklega fyrir yfirvegun og yfirsýn greinarhöfundar, sem heitir  Hamid Golpira. Hann hvetur til þess að 9/ 11 verði gerður að alþjóðlegum minningardegi. Í niðurlagi greinar sinnar segir hann, að slík athöfn á heimsvísu "til minningar um allt það saklausa fólk sem lét lífið þennan dag gæti orðið til að stuðla að friði og sanngjarnari heimsmenningu". Greinarhöfundur minnir okkur síðan á að hinn 9. september árið 2001 hafi fleira saklaust fólk látið lífið en þeir sem þann dag voru drepnir í New York og Washington. Þannig hafi á þessum eina degi 30 þúsund börn og 8 þúsund fullorðnir dáið úr hungri og sjúkdómum sem rekja megi til fátæktar. "Börnin í þriðja heiminum upplifa 9/11 á hverjum einasta degi". Síðan rekur Hamid Golpira atburði sem áttu sér stað á þessum tíma víðs vegar um heiminn og er það umhugsunarverð lesning. Þessi nálgun opnar víða sýn á heiminn. Hún hvetur til raunsæis og er stefnt gegn fordómum. Hún er umburðarlynd. Ég læt greinina fylgja á ensku og síðan vefslóðir bæði á þessa grein og blaðið sem hún birtist í.

12. September 2004

Davíð, Halldór og yfirlýsingarnar

...Ætlar landslýður virkilega að láta þessa loddara komast upp með að selja eða gefa frá okkur allar mjólkurkýr þjóðarinnar en láta okkur skattborgara síðan sitja uppi með allt sem óarðbært er en þó félagslega nauðsynlegt eins og fjármögnun dreifikerfisins á strjálbýlum svæðum? Sjá menn ekki að þessi ríkisstjórn er ekki að þjóna hagsmunum þjóðarinnar heldur hagsmunum fjárgróðamanna sem geta ekki beðið eftir að ...
Sunna Sara

12. September 2004

Um gáfuleg viðfangsefni

Ég held það nú elsku karlinn minn að þú hafir málað þig útí horn. Það er ekki eðlilegt að fólk borgi ekki húsaleigu þó það sé veikt. Það hefur sjúkrapening frá Tryggingastofnun sem á að vera nóg til að borga húsaleigu, sérstaklega þegar hún er ekki hærri en 15 þúsund á mánuði. Að viðkomandi aðili hafi ekki verið borinn út fyrir löngu er ...
Gunnar

11. September 2004

Okkur ber skylda til að veita aðhald

Birtist í Morgunpósti VG 10.09.04.
Á ráðstefnu sem Vinstrihreyfingin grænt framboð efndi til fyrir nokkru síðan flutti Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri í Reykjavík, mjög gott erindi sem er mér minnisstætt. Minnisstæðust er mér sú staðhæfing hennar að þeir sem byggju við erfiðustu lífskjörin og væru að auki án stuðnings frá fjölskyldu eða nánum vinum, auðnaðist síður en öðrum að nýta sér þá félagsþjónustu sem þó væri í boði og þeir ættu rétt á. Þetta var opinská og heiðarleg yfirlýsing og laus við það sem því miður einkennir alltof oft umræðu um félagsleg vandamál, að menn hlaupi strax í vörn og neiti að viðurkenna og ræða vandamálin. Það sem felst í þessari staðhæfingu Láru er að þrátt fyrir að félagsþjónustan í Reykjavík sé um margt góð og öflug þá sé það engu að síður svo...

11. September 2004

11.september í Nýju róttæku miðstöðinni

Þrjú ár eru nú liðin frá árásunum á New York og Washington og er í dag haldin minnigar- og menningardagskrá í Nýju róttæku miðstöðinni að Garðastræti 2 (101 Reykjavík), um atburðina 11. september 2001 og eftirköst þeirra.  Stofnun Nýju róttæku miðstöðvarinnar er lofsvert framtak sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Það er Gagnauga.is sem stendur að skipulegningunni en fyrir þá sem ekki til þekkja er athyglisvert að fara inn á þann róttæka og gagnrýna vef. Eins og fram kemur í meðfylgjandi dagskrá ...

10. September 2004

Það á ekki að eiga sér stað að efnalítið fólk sé borið út

Birtist í Morgunblaðinu 09.09.04.
...Félagsþjónustan í Reykjavík er að sönnu öflug og gerir marga hluti mjög vel. Varla er hún þó hafin yfir gagnrýni. Að sjálfsögðu ekki. Það er henni meira að segja lífsnauðsyn að hafa aðhald og það er okkar allra að veita það aðhald. Ég efast ekki um ...

8. September 2004

Minniháttar leiðrétting við meiriháttar mál

Blaðamaður á DV sýnir í dag hvers hann er megnugur í rannsóknarblaðamennsku. Honum þótti miður að fá ekki viðtal við öryrkjann, sem styr hefur staðið um í fjölmiðlum síðustu daga eftir að ég vakti máls á því að hann hefði verið borinn út með lögregluvaldi í síðustu viku. Blaðamaður reyndi að fá viðtal við manninn en hann neitaði. Sagt var að það væri misráðið því viðtal við DV kæmi honum eflaust til góða. Þá var tekinn upp næst besti kostur, að banka upp hjá nágrönnum og kanna hvort þeir hefðu eitthvað misjafnt um hann að segja. Svo reyndist vera. Ekki veit ég hvort rétt og satt er sagt frá. Hins vegar get ég staðfest að fullyrðingar DV um sjúkdóm mannsins eru ekki réttar – því miður. Betur væri að hann...

8. September 2004

Líflegur og hress öryrki

... Síðan segir: “Samkvæmt nýrri skýrslu eftir læknisskoðun á ástandi “X”, áður en hann var borinn út, hefur krabbamein hans ekki látið á sér kræla frá 1999.”
Eru læknaskýrslur opnar blaðamönnum DV? Er ekki til eitthvað sem heitir siðanefnd blaðamanna ...
Runki frá Snotru

7. September 2004

Furðufálki í fjármálaráðuneyti?

Í Kastljósþætti í gærkvöldi var rætt við fjármálaráðherra um kaup Símans á SkjáEinum. Í því sambandi er ærin ástæða til að spyrja hvar fjármálaráðherra hafi haldið sig undanfarna mánuði. Ekki verður þó farið nánar út í þá sálma að sinni. Undir lok þáttarins spurði Kristján, annar þáttarstjórnanda hvort ekki drægi að því að stimpilgjöld yrðu afnumin. Geir H. Haarde taldi að ...
Ísmann

7. September 2004

Spurningar til yfirvalda í Reykjavík

Birtist í Morgunblaðinu 06.09.04.
...Engu að síður voru, áður en læknisrannsókn fór fram, gerðir út af örkinni menn til að loka fyrir rafmagn í íbúð mannsins. Af hálfu borgarinnar hefur enginn grennslast fyrir um afdrif þessa einstaklings eftir að hann var rekinn á dyr. Af þessu tilefni óska ég eftir að eftirfarandi verði upplýst opinberlega...

6. September 2004

Eiríkur varar við prósentublekkingum

Ég veit ekki hve margir hlustuðu á Eirík Jónsson, formann Kennarasambandsins, í útvarpi um daginn ræða kjarakröfur kennara. Grunnboðskapur hans var sá að varast að láta prósentur villa sér sýn. Hann tók dæmi af ofurlaunamanni annars vegar, gott ef það var ekki bæjajarstjórataxtinn eins og hann birtist í Frjálsri Verslun, og kennara hins vegar. Ég man ekki nákvæmlega tölurnar en röksemdafærslan var einhvern veginn á þessa leið...
Hafsteinn Orrason

5. September 2004

Tangarsókn Kolkrabbans

Þeir töpuðu orustu en stríðinu er langt í frá lokið. Aðilarnir sem voru "kjöldregnir" fyrir skömmu og hafa látið lítið fyrir sér fara að undanförnu, neyta nú allra ráða til að rétta hlut sinn og "kramsa til sín eignir almennings". Feitasti bitinn nú um stundir er Landssíminn sem enn er að 99% í eigu ríkisins. Nú liggur lífið við og rétt rúm vika þar til Framsókn nær forsætisráðuneytinu. Óvæntur millileikur, sem í fréttatilkynningu Símans var kynntur sem "þátttaka í kaupum á enska boltanum" (vantar ekki hógværðina), en sem í reynd hefur þann höfuðtilgang að bjarga SkjáEinum frá gjaldþroti og væntanlega tryggja skuldir Símans gagnvart SkjáEinum, sem engar ...
Ísmann  

5. September 2004

BLÓÐBAÐ 2004

Á leiksviði andans ég yrki
og orðanna verð ég að leita,
hug minn og hjarta ég virki,
ég heiminum ætla að breyta.... 

 Kristján Hreinsson, skáld

5. September 2004

Reykjavíkurborg rekur fátækt fólk á dyr

...Ekki síst vildi ég fá að vita hvort það hafi oft átt sér stað, að krabbameinssjúkur öryrki til margra ára hafi verið borinn út með lögregluvaldi. Þetta gerðist síðastliðinn föstudag. Málið er mér skylt því ég hafði viku áður, tveimur dögum áður en bera átti manninn út, skrifað borgaryfirvöldum ... svohljóðandi bréf ...  

4. September 2004

Í Coronafötum á kaupleigu

...Maður hélt nú að þessar hrakfarir yrðu til þess að Landssíminn yrði látinn í friði næstu árin.
En nú er atlaga númer tvö hafinn. 
Verður það eitt af stóru "metnaðarmálum" eða öllu heldur "hagsmunamálum" nýs forsætisráðherra að knýja á um sölu Landssímans...
Sveinn

4. September 2004

Ábending til Runka

...Runki, bíddu með að leita læknis. Með þessum kaupum er verið að gera fyrri þjófnað ennþá kræafari. Meira að segja hið varfærna og íhaldssama RÚV gat ekki orða bundist á fréttavef sínum. Þar segir “En þrátt fyrir að gengi Skjás eins hafi verið gott í þau fimm ár sem liðin eru frá að hann hóf útsendingar hefur ýmislegt gengið á því eins og fyrr sagði hefur verið tap á rekstrinum. Svo má ekki gleyma að eitthvað af þeim peningum ...
Doktor Watson

3. September 2004

Að gerast pensill hjá listmálara


Fyrir stuttu síðan hlotnaðist mér sá heiður að fá að taka þátt í listsköpun Önnu Hrefnudóttur, myndlistarkonu. Henni hugkvæmdist nefnilega að leita til nokkurra einstaklinga af mismunandi árgerðum og upplagi, og fá þá til mála með sér á striga – óundirbúið og impúlsíft. Í öllum tilvikum gerist þetta í fjöru, í mínu tilviki í Sundskálavör í Skerjafirði. Heimilt er að nota fjörusandinn...

3. September 2004

Ósvífnir atvinnurekendur

Framkoma SA nú er því nánast hlægilega ósvífin. Samtökin þykjast þess umkomin í krafti þeirra kjarasamninga sem þau hafa gert við ASÍ að segja öllum öðrum fyrir verkum. Til þess eru hvorki félagslegar né siðferðilegar forsendur. Ef kjarasamningar, sem nú eru í farvatninu leiða til þess að fyrri samningar verði endurskoðaðir þá efast ég stórlega um að Alþýðusamband Íslands myndi gráta það neitt sérstaklega, ekki síst ef þá tækist að ná fram ýmsum sanngjörnum kröfum sambandsins, sem atvinnurekendum hefur tekist að ýta út af borðinu með óbilgirni sinni...

3. September 2004

Kraftaverkamenn á hverju strái

...En varðandi hjólið og fólkið sem er að finna það upp var sú tíðin að 4,2% vextir ofan á vístölubindingu þóttu háir vextir. Þannig tók ég mín lán í byrjun níunda áratugarins með 2,25% vöxtum ofan á vísitölu...

3. September 2004

Hvort er það ég sem er sjúkur eða þjóðfélagið?

Hvað á ég að gera? Stundum kemur sú hugsun upp í huga minn hvort ég sé yfirleitt í lagi; hvort geti verið að ég sé haldinn skinvillu eða einfaldlega heimskur og/eða geðveikur.  Í fréttum áðan heyrði ég að Landssíminn, sem er í eigu ríkisins, hefði keypt sýningarrétt á enska fótboltanum fyrir Sýn. Ríkisútvarpið, sem einnig er í eigu ríkisins, bauð á móti Sýn en skorti fé. Þar sem dýrt er að leita læknis, sérstaklega sérfræðings og geðlyf dýr er mér mjög í mun að fá botn í það hvort það sé ég sem er veikur eða þjóðfélagið ....
Runki frá Snotru

2. September 2004

Eiga skatthirslurnar að standa öllum opnar?

Birtist í Morgunpósti VG 31.08.04
...Ég heyri ekki betur en Sjálfstæðisflokkurinn sé farinn að tala fyrir því að nýr háskóli á Vestfjöðrum verði einkarekinn. Láta menn sér til hugar koma, að ef þetta yrði ofan á, að sá skóli yrði einhvern tímann sviptur réttindum jafnvel þótt einhverjum þætti ástæða til slíks í menntamálaráðuneytinu? Halda menn kannski að þá væri til staðar á Ísafirði nægilega öflugur keppinautur sem gæti tekið við rekstrinum? Sjá menn ekki að þetta er rugl? Í þessum skilningi er er enginn...

31. Ágúst 2004

Afreksfólk örvar aðra til dáða

Ef ég væri spurður hvort áherslu ætti að leggja á afreksíþróttir eða almanna-þáttöku í íþróttum myndi ég hallast að hinu síðarnefnda. Málið er þó ekki alveg svona einfalt. Árangur afreksfólksins beinir nefnilega sjónum okkar hinna að íþróttunum, vekur áhuga okkar á þeim og  ef rétt er á haldið getur örvað áhuga ungs fólks að stunda íþróttir. Enn er mér minnisstætt hvernig árangur Friðriks Ólafssonar í skákinni á sínum tíma virkaði sem vítamínsprauta á skááhugann...

30. Ágúst 2004

Bankar í hagsmunabaráttu

Birtist í Morgunblaðinu 28.08.04.
...Mikilvægt er að fylgjast vel með þessum vendingum á húsnæðismarkaði og í húsnæðiskerfi landsmanna. Hér eru geysilegir hagsmunir í húfi. Bankarnir hafa sýnt að þeir kunna að hugsa um sinn hag. Almenningur þarf að hugsa um almannahag. Þetta tvennt fer nefnilega ekki alltaf saman...

29. Ágúst 2004

Beðið eftir "réttu" aðilunum

Framsókn hefur jafnan haft næmt auga fyrir því að fá pólitískan ávinning út úr sölu ríkiseigna. Alræmdust var sala bankanna hvað þetta snertir. Í stað þess að bjóða þá út á hlutabréfamarkaði krafðist flokkurinn þess að gengið yrði til samninga við svokallaða kjölfelstufjárfesta. Allir sáu hvað hékk á spýtunni eftir að fyrirtæki, sem kennd hafa verið við Framsóknarflokkinn og með marga helstu forkólfa hans innanborðs, höfðu klófest annan ríkisbankann og hagnast um milljarða á kostnað skattborgaranna. Nú er Framsókn greinlega farin að stúdera hvern pólitískan ávinning hún getur haft út úr sölu Landssímans...

29. Ágúst 2004

Framsóknarmengið

... Það sem sett er innan gæsalappa, hér að framan, er væntanlega beint eftir ráðherranum haft. Teljast það ekki nokkur tíðindi að ráðherrann telji iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið til hluta af framsóknarmenginu?
Kveðja,
Sveinn

27. Ágúst 2004

Fyrst taka þau hálendið og svo taka þau...

... Allar þessar grundvallarspurningar vakna við hina framsæknu umræðu í Framsóknarflokknum nýverið. Og ekki má gleyma: Eru eftirlaun ráðherra réttlát? Á að deila völdum og áhrifum út eftir hæfileikum eða kynferði? Á að minnka völd og áhrif ráðherra og deila þeim út meðal almennings? Er Alfredo Scransali réttur maður á réttum stað? Af hverju fá samkynhneigðir ekki ráðherrastól hjá Framsókn? Loksins, loksins er farið að ræða...
Þráinn

25. Ágúst 2004

Hvað var á pylsunni?

Yfirleitt hafa Íslendingar mikinn metnað og ég held að óhætt sé að segja að oft sýnir þjóðin þann metnað í verki. Mikið er ég sammála greininni þinni hér á síðunni um fræga fólkið sem hingað kemur og þarf að þola stöðugt áreiti fjölmiðla og forvitins fólks sem gónir á það eins og naut á nývirki. Það er leiðinlegt að gera gestum okkar þetta en verst erum við sjálfum okkur. Við verðum nefnilega svo óumræðilega smá með því að geta ekki tekið á móti þekktu fólki án þess að glata allri dómgreind. Allt sem heimsþekktur maður gerir á Íslandi  þykir ...
Sunna Sara

25. Ágúst 2004

Á okkar ábyrgð

Myndir geta verið áhrifaríkari en orð. Faðir huggar son sinn, heitir myndin sem hlaut World Press Photo verðlaunin í ár. Myndina tók franski ljósmyndarinn Jean-Marc Bouju en hann starfar fyrir Associated Press fréttastofuna. Myndin er úr fangabúðum í Najaf í Írak og sýnir fanga reyna að hugga fjögurra ára son sinn. Fanginn er látinn hafa hettu yfir höfði sínu en slíkt virðist tíðkast í herfangelsum Bandaríkjamanna, til að draga úr sjálfsöryggi og svipta menn mennskunni. En hve margir skyldu hugleiða þegar þeir horfa á þessa mynd eða svipaðar myndir, að fangarnir eru meðhöndlaðir á þennan hátt á ábyrgð Íslendinga. Hér á síðunni...

23. Ágúst 2004

Þegar markaðslausnir eru andstæðar skynsemi og þjóðarhag

Birtist í Morgunpósti VG 21.08.04
...bárust umsagnir fjölmargra hagsmunaaðila, þar á meðal frá Félagi íslenskra skipstjórnarmanna. Í umsögn félagsins þótti mér mælt af miklum hyggindum auk þess sem mjög eftirtektarverður þjóðhagslegur samanburður var gerður af þeirra hálfu á milli sjóflutninga annars vegar og land- og loftflutninga hins vegar. Almennt lýsti félagið sig „fylgjandi þeirri stefnu að samgöngumál séu skipulögð sem samstæð heild í stað þeirrar tilhögunar sem áður var, að líta á hvern hinna þriggja þátta samgangna sem afmarkaðar stærðir, skipulagslega og hagrænt“. Hér koma síðan tvö samanburðardæmi ...

23. Ágúst 2004

Frábærum ráðherra sparkað

Í VG gefið þið ykkur út fyrir að vera jafnréttissinnar. Ég verð að segja að heldur finnst mér þið þegja þunnu hljóði þegar verið er að fótumtroða rétt kvenna í Framsóknarflokknum. Siv Friðleifsdóttir, sem nú er látin víkja af ráðherrabekknum, hefur staðið sig frábærlega sem ráðherra umhverfismála á örlagatímum... Hún er alla vega kona. Á hún að þurfa að gjalda þess?
Halldóra

22. Ágúst 2004

Vill friða framsóknarmann

Friðum Framsókn!! Þar sem ekki var hægt að friða Kjárahnjúka. Væri þá hægt að friða eins og einn framsóknarmann, td. Guðna Ágústsson, Sif eða Halldór. Flokkurinn er í útrýmingarhættu. Þarf ekki að taka þetta upp á þingi? Kostunaraðilar yrðu að sjálfsögðu Vís, Samskip og Ísl erfðagreining, sem sæi um klónuina. Við verðum að halda okkar þjóðlegu einkennum og gildum.
Runki frá Snotru

22. Ágúst 2004

Jón Baldvin Hannibalsson hótar endurkomu

Fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og núverandi sendiherra Íslands í Helsinki í Finnlandi, mætir nú í hvert viðhafnarviðtalið á fætur öðru, nú síðast um helgina í Fréttablaðið, og hótar því að hefja að nýju þátttöku í íslenskum stjórnmálum. Reyndar er hann þegar kominn inn á fullu gasi. Og hvar skyldi Jón Baldvin Hannibalsson fyrst bera niður? Jú, það er áminningarfrumvarp Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra, sem þessi tilvonandi alþingismaður staðnæmist fyrst við. Eins og menn rekur eflaust minni til gengur þetta frumvarp út á það að hægt verði að segja starfsfólki.upp skýringalaust. Um þetta segir þessi fyrrverandi Alþýðuflokksformaður og núverandi Samfylkingarmaður...

21. Ágúst 2004

Friðhelgi fyrir fræga

Sæll Ögmundur.
Ég ætla ekki að bera framm neina spurningu til þín, en lýsa yfir stuðningi að ríkt og frægt fólk fái að vera í friði fyrir látum og hamagangi fjölmiðla og ljósmyndara.
Kveðja,
Sigurbjörg

20. Ágúst 2004

Reed/McCartney og Íslendingar

Tónlistarmaðurinn Lou Reed er á Íslandi. Margir kannast við hann eins og reyndar marga aðra, listafólk og annað þekkt fólk sem hefur sótt okkur heim að undanförnu. Það eiga þessir gestir sameiginlegt að engan frið fá þeir fyrir landanum, friðlausum af æsingi. Menn vilja ljósmynd eða eiginhandaráritun eða bara góna á hina heimsþekktu gesti. Það er af sem áður var að þekkt fólk sem sótti Ísland heim fékk að vera í friði. Aðkomumenn kunnu að meta þetta og þóttu Íslendingar menn að meiri fyrir að vera lausir við þann fáfengileika sem fylgir þessu frægra manna dekri. Framar öllu kunnu gestirnir að meta að fá að njóta friðhelgi. Fyrir fjórum árum kom Paul McCartney, bítillinn frægi, hingað til lands. Hann var eltur á röndum. Af því tilefni skrifaði ég litla blaðagrein með ákalli til fjölmiðlafólks. Þetta ákall á ekki síður við nú en þá.

20. Ágúst 2004

Þegar Framsókn hverfur

Burtu dapur flokkur fer,
feigð að honum sverfur,
þrifalegt mun þykja hér
þegar Framsókn hverfur.
 
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld

19. Ágúst 2004

Hagsmunaaðili ráðleggur sér til hagsbóta

Hins vegar hefur einkaframkvæmd þjónað hagsmunum fjárfesta sem fengið hafa opinbera starfsemi í sína umsjá. Og hverjir skyldu nú vera harðdrægastir á þessum markaði? Það er einmitt ráðgjafinn og einkaframkvæmdaraðilinn  Nýsir hf. Í gær var sagt frá því að Nýsir hefði keypt Egilshöllina, íþróttamannvirkið í Grafarvogi.  Í gögnum frá fyrirtækinu kemur fram að það hefur nú fengið til einkaframkvæmdar fjöldann allan af opinberum stofnunum. Nýsir hf er eigandi og rekstraraðili fasteigna...

18. Ágúst 2004

Stórsjór í tebolla?

Hvernig vilt þú að ráðherralið Framsóknarflokksins verði eftir 15. september? Finnst þér ekki skipta máli hvernig ráðherrabekkurinn verður skipaður...
Guðbjörn

17. Ágúst 2004

Lýðræðissinnar fagna úrslitum í Venezuela

Úrslitin í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Venuzuela eru lýðræðissinnum víðast hvar í heiminum að skapi. Það á hins vegar fyrst og fremst við um lýðræðissinna. Ekki aðra. Ekki til dæmis George Bush, Bandaríkjaforseta. Talsmenn  Hvíta hússins í Washington sögðu eftir að niðurstöður atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir að þeir myndu ekki viðurkenna úrslitin fyrr en ...

15. Ágúst 2004

Skynsemin notar öll skilningarvit

Birtist í Morgunblaðinu 14.08.04
...Hvað skyldi fá menn til að segja þvílíkt og annað eins? Að öllum líkindum blanda af vanahugsun og hugmyndafræði. Þröng pólitísk hugmyndafræði leyfir bara eina nálgun við lausn úrlausnarefna. Hægri sinnaðir menn nú um stundir telja ekkert koma annað til greina við lausn úrlausnarefna en að beita markaðslausnum – undir öllum kringumstæðum. Markaðnum megi stýra að einhverju takmörkuðu leyti, en hann skal vera grunnurinn. En ef svo skyldi fara að neytandanum er ekki boðið upp á val og ef...

9. Ágúst 2004

Hvaða nefndarlaun þola ekki dagsljósið?

...Nefndarmönnum hafði ekki nægt að þiggja há nefndarlaun heldur réðu þeir sjálfa sig til þess að vera sjálfum sér til ráðgjafar – að sjálfsögðu á himinháum töxtum sjálfstætt starfandi lögfræðinga. Er það þessum mannskap sem verið er að hlífa ...

9. Ágúst 2004

Ekki bara bjór og brennivín, við verðum líka að drepa

Tvær tilvitnanir, önnur vegna bjórauglýsinga á strætóskýlum og hin vegna auglýsina á strætó: “Hinn aðilinn sem ég vil nefna er Reykjavíkurborg sem lætur bjórfyrirtæki nota strætóskýlin til að auglýsa bjór og fara þannig á bak við landslög. Ég gladdist því mjög þegar ég frétti að Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi hyggist...
...
“Eftir innrás Tuddanna í vopnabúr M16 hófst mikil eftirför Þjösnanna eftir þeim.  Vopnunum skyldi náð aftur.  Barist var fram í rauðan dauðann og ...
Allir í strætó.
Rúnar

8. Ágúst 2004

Andanum lyft á síðum Weekendavisen

Ef allir létu berast með straumnum, spyrðu aldrei gagnrýninna spurninga og andæfðu ekki þegar þeim þætti stefna í óefni, er hætt við að við næðum aldrei því stigi að geta kallað samfélag okkar siðað menningarsamfélag. Það getur krafist hugrekkis að gagnrýna hið hefðbundna. Það á svo sannarlega við um Hirsi Ali, 35 ára konu frá Sómalíu sem nú á sæti á hollenska þinginu. Það á einnig við um Karsten Möller stjórnanda danska herskólans. Þetta eru ólíkir einstaklingar en tilviljun réði því að viðtal er við þau bæði í danska blaðinu Weekendavisen um síðustu mánaðamót (30. júlí – 5. ágúst) og önnur tilviljum réð því að eintak af blaðinu barst mér í hendur. Mér þótti þessi viðtöl gefa bjartsýni byr undir báða vængi. Það er alltaf gaman að heyra til fólks sem lyftir andanum – ekki síst þegar einstaklingarnir koma úr óvæntri átt. ...

7. Ágúst 2004

Eimskipafélagið – einkavæðing og gamall Morgunblaðsleiðari

Birtist í Morgunblaðinu 04.08.04.
Fyrir nokkru síðan fór Jón Bjarnason fyrir okkur þingmönnum VG og flutti þingsályktunartillögu um að rækileg úttekt yrði gerð á strandsiglingum við Ísland með það fyrir augum að efla þær. Þingmálinu var vísað til ríkisstjórnarinnar. Hún hefur hins vegar ekkert aðhafst í málinu eftir því sem ég kemst næst. Hins vegar hef ég fyrir satt að Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra hafi ekki verið skemmt þegar honum voru færð tíðindin af ákvörðun Eimskipafélagsins nú. Einu sinni var talað um Eimskipafélagið sem óskabarn þjóðarinnar og talsmönnum þess varð tíðrætt um ábyrgð þegar um heildarhagsmuni þjóðarinnar væri að ræða. Ekki þekki ég félagslega samvisku Eimskipafélagsins í gegnum tíðina til að ...

7. Ágúst 2004

Mikilvæg umræða er hafin

Það er ekkert meira stjórnlyndi falið í því að leggja 400 milljónir á ári til strandsiglinga (sem er ca. sú upphæð sem lögð var til á sínum tíma) en að setja 700 milljónir í sendiráð í Tókýó til að niðurgreiða sölukostnað SH í Japan. Ráðstöfun á almannafé er ekki flokkanleg átómatískt í hægri og vinstri; ég er hræddur um að við verðum að nenna að hugsa. Það fæst svo lítið í hinum pólitísku heildsölum einsog stendur. Guðmundur fjallar ekkert um það hvort það séu einhverjir hagsmunir handan við arðsemiskröfur Eimskipafélagsins. Það er sem sé Eimskipafélagið sem skilgreinir hagsmuni heildarinnar. Það er barnaleg hugsun og alveg flöt og blæbrigðalaus. Nenna menn ekki að hugsa út fyrir hinar himnesku formúlur...
Þráinn

31. Júlí 2004

Auglýsingabann í þágu brennivínssala?

...Þetta er fullkomið stílbrot hjá ÁTVR sem fram til þessa hefur sýnt ábyrgð enda ástæðan fyrir einkarekstrinum m.a. sú að opinbert þjónustufyrirtæki gangi ekki eins hart fram í auglýsingamennsku og einkafyrirtæki í leit að hámarksgróða. Með þessu er ÁTVR að grafa undan eigin tilverurétti. Hinn aðilinn sem ég vil nefna er Reykjavíkurborg sem lætur bjórfyrirtæki nota strætóskýlin til að auglýsa bjór og fara þannig á bak við landslög. Ég gladdist því mjög þegar ég frétti að Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi hyggist taka málið upp og krefjast endurskoðunar á auglýsingasamningi við viðkomandi aðila...

29. Júlí 2004

Er það rétt hjá Morgunblaðinu að allar umbætur komi að utan?

Leiðari Morgunblaðsins í dag ber yfirskriftina Umbætur að utan. Í leiðaranum er vitnað í Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, sem í vikunni lagði fram á ríkisstjórnarfundi ramma fyrir framhald samningaviðræðna um viðskipti á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, svonefndra Doha-viðræðna. Í viðtali við Morgunblaðið hafði Halldór Ásgrímsson sagt...

26. Júlí 2004

Torfi Stefánsson skrifar: Sænsk dæmisaga frá Guantanamo

Nú eru Bandaríkjamenn búnir að láta lausan sænska fangann í Guantanamo-búðunum, Mehdi Ghezali. Umheiminum berst því enn ein frásögnin af pyntingum sem þar hafa farið fram.  Mehdi Gezali sem varð 25 ára nú fyrir nokkrum dögum, lýsir því hvernig hann var hlekkjaður og pyntaður tímum saman, allt að 14 klukkustundum í senn. Hann var, í tvö og hálft ár, í klefa sem var þrjú löng skref á lengd og tvö til þrjú skref á breidd. Allan þennan tíma var hann ávarpaður með númeri, „US9SWE000166", aldrei með nafni. Í janúar 2002 var Ghezali...

26. Júlí 2004

Um synjunarvald og málskotsrétt

Eitt sem hefur truflað mig í allri þessari umræðu um stjórnarskrárdeiluna er þetta: Það er mikið talað um málskotsrétt forseta. Ég skil stjórnarskrána þannig að forsetinn hafi synjunarvald, ríkisstjórnin hins vegar réttinn til að skjóta til þjóðar til að hnekkja neitunarvaldinu. En ég er ekki lögfræðingur og varla skiptir þetta miklu máli lengur enda best að færa þetta allt saman frá forseta og ríkisvaldi til þjóðarinnar...
Þ.

25. Júlí 2004

Álvinir Valgerðar í "skemmtiferð ásamt öðru"

Auðhringurinn Alcoa er hættur að fara um heiminn í leit að vinum. Eftir að hann kynntist Framsóknarflokknum á Íslandi lætur hann sér nægja að ferðast um Ísland í leit að virkjunarkostum. Heima fyrir, í Bandaríkjunum, lokar Alcoa álverum sínum hverju á fætur öðru eftir að Finnur, Valgerður og Halldór buðu upp á slík kostakjör við kaup á raforku við Kárahnjúka, að öðru eins höfðu menn aldrei kynnst. Frá þeim tímapunkti þegar Norsk Hydro gaf frá sér að reyna rekstur álverksmiðju á Austurlandi og Framsóknarflokkurinn ákvað að gera menn út til að ná í kaupanda að orku frá væntanlegri Kárahnjúkavirkjun hvað sem það kostaði, mátti öllum ljóst vera að...

22. Júlí 2004

Nú reynir á anda laganna

Stjórnarandstaðan kom fram sem órofa heild í fjölmiðlamálinu og stóð sem einn maður vörð um stjórnarskrá landsins. Í umræðunni sem framundan er munu að sjálfsögðu koma fram mismunandi sjónarmið hvað þessi efni varðar og er mikilvægt að mínu mati að sú umræða verði opin og þverpólitísk. Það væri mjög óæskilegt að mínu mati, að hún færi inn í mjög flokkspólitískan farveg. Í umræðum um stjórnarskrármálið hefur komið fram áherslumunur í afstöðu einstaklinga hvort sem þeir heyra til ...

22. Júlí 2004

Vilt þú þrjú ár eins og Össur?

Sæll Ögmundur Nú þegar þetta fjölmiðlafrumvarp er úr sögunni, langar mig til að fá þína sýn á framhaldið, ertu á sömu skoðun og Össur um að eyða næstu þrem árum í samningu nýs frumvarps um fjölmiðla? Með fyrirfram þökk...
Ægir

21. Júlí 2004

"Þannig að þú ert sáttur......"

Svarið gaf sig fyrirfram eins og svo oft þegar Sjónvarpið spyr forsætis- og utanríkisráðherra þessa dagana. Mér finnst það ástand uppi nú Ögmundur að spurningar ákveðinna fjölmiðla sem lagðar eru fyrir ráðherrana tvo segi meira um vanda fjölmiðlanna en bæði ársreikningar þeirra og fjölmiðlaskýrslur. Hvað finnst þér Ögmundur, hvernig hyggst þú ...
Ólína

21. Júlí 2004

Leikreglur ber að virða

Hvernig ætlar stjórnarandstaða að réttlæta það fyrir þjóðinni og forsetanum að forseti landsins er ítrekað vanvirtur af hálfu ráðherra og þingmanna meirihluta þings en ég tel að stjórnarandstaðan taki þátt í þeim ljóta leik ef hún leggur blessun sína yfir þá gjörð að ganga framhjá ákvörðun forsetans um að vísa málum til þjóðarinnar Leikreglur ber að virða. Munt þú beita þér gegn þeirri aðför ...
Hafþór Baldvinsson

20. Júlí 2004

Ríkisstjórnin mótmælir mannréttindabrotum í Guantanamo - í kyrrþey

Enda þótt framangreind samtök fagni því að íslensk stjórnvöld sýni einhvern lit vekur athygli af hve mkilli hógværð og linku þau koma fram í þessu máli. Það var ekki fyrr en eftir að undirskriftasöfnun er komin af stað að frá því var greint að utanríkisráðuneytið hafi komið mótmælum á framfæri.

Mótmæli í kyrrþey skipta nánast engu máli og eru lítið annað en friðþæging. Það sem máli skiptir er hvað sagt er opinberlega helst á pólitískum vettvangi þar sem mannréttindabrjóturinn er veikur fyrir. Það hafa fulltrúar okkar í utanríkismálum, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson nánst aldrei gert þegar Bush og Bandaríkin eru annars vegar. Fræg að endemum var för Davíðs vestur um haf nýlega þar sem hann spilaði þeirri yfirlýsingu inn í kosningabaráttu Bush að hann hefði gert heiminn friðvænlegri með árásinni á Írak! Ekki orð um Guantanamó eða pyntingar í bandarískum herfangelsum...

20. Júlí 2004

Vorblær í Krónhjartarhjörðinni

...Hann eyðir kröftum sínum stefnulaust, snýst í hringi, baular hátt og starir blóðhlaupnum augum í kringum sig. Á meðan halda ungu hirtirnir sig til hlés en láta þó vita af sér. Einn af ungu krónhjörtunum, Guðlaugur Þór, leyfði sér að missa út úr sér í sjónvarpinu, setningu sem byrjaðir svona: "Það er hins vegar ekki rétt hjá Davíð..." Þetta hefði fyrir ári síðan jafngilt því að henda sér fram af Hallgrímskirkjuturninum í pólitískum skilningi. En núna - núna mun þetta ...
Þráinn

19. Júlí 2004

Þrír þankar til umhugsunar

Í þriðja lagi er reynt að dreifa þeirri hugmynd að allir séu orðnir þreyttir á málinu! Fólk sé búið að fá sig fullsatt á umræðu um það. Í Kastljósi á föstudag kvað nokkuð við þennan tón. Hér þurfa ábyrgir fréttamenn að gæta sín. Að sjálfsögðu mega menn aldrei þreytast á að tala um brot á stjórnarskrá landsins! Slíku verður ekki jafnað á við hvert annað dægurmál sem menn geti leyft sér að verða þreyttir á. Ef grundvallarreglur lýðræðisins er brotnar ber okkur skylda til að rísa til varnar og láta ekki deigan síga fyrr en sigur vinnst. Það er síðan allt annar handleggur, að fólk vill að þetta mál ...

18. Júlí 2004

New York Times og íslenskir fjölmiðlar

Sæll Ögmundur
Sá frétt þína um afsökun NYTimes. Hún er mjög umhugsunarverð. En ég vil benda á að blaðið  hóf þessa sjálfsgagnrýni fyrr á árinu. Til marks um það er eftirfarandi leiðari frá 26. maí. Hann má nálgast í gegnum þennan tengil...
Huginn

18. Júlí 2004

Tekið undir með Þorleifi

Ég vil taka undir með Þorleifi Gunnlaugssyni í prýðisgóðri grein hans hér á síðunni þar sem hann fjallar um framtíðarstjórnarmynstrið. Auðvitað á stjórnarandstaðan að ákveða að mynda næstu ríkisstjórn og hvika hvergi frá þeirri ákvörðun. Í mínum huga er Framsóknarflokkurinn að missa af þeirri lest auk þess sem honum á ekki að líðast að vera í ...
Anna

18. Júlí 2004

Í óvissuferð með Neró

Enda þótt Framsóknarflokkurinn lúffi fyrir Sjálfstæðisflokknum í nánst öllum stefnumálum þá verður hitt ekki af honum skafið að núverandi forystu hefur tekist að halda flokknum við völd í tvö kjörtímabil. Staksteinar Morgunblaðsins segja þetta stórkostlegan árangur. Vissulega má taka undir þetta ef mönnum þykir meira vert um flokkshag en þjóðarhag. Framhjá því verður ekki horft að samkvæmt helmingaskiptareglu hefur Framsóknarflokknum tekist í samstarfi sínum við Sjálfstæðisflokkinn að ...
Hafsteinn Orrason

18. Júlí 2004

Stóll mikilvægari stjórnarskrá?

Birtist í Morgunblaðinu 17.07.04.
Margir urðu agndofa við fréttir útvarps- og sjónvarpsstöðvanna á fimmtudag. Ekki endilega að formenn stjórnarflokkanna kæmu á óvart. Miklu fremur þingmenn stjórnarmeirihlutans, sem sumir hverjir hafa verið með sverar yfirlýsingar í fjölmiðlum undanfarna daga. Þannig hafði Jónína Bjartmarz frá Framsóknarflokki lýst því yfir að hún væri á þeirri skoðun að það eitt stæðist stjórnarskrá að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðlu undanbragðalaust. Þingið gæti ekki tekið málið út úr því ferli. Við þessar yfirlýsingar vöknuðum við upp einn morguninn ...

16. Júlí 2004

Ríkisstjórnin liggur undir grun – en fer málið fyrir dóm?

Hvorki er ég lögreglumaður né lögfræðingur og hef því ekki persónulega komið nálægt málum manna sem grunaðir eru um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Þrátt fyrir þennan annmarka þykist ég vita hvernig brotamenn reyna að sigla milli skers og báru til að bjarga eigin skinni meðan á rannsókn stendur og allt þar til meðferð mála lýkur fyrir dómstólum. Og þannig finnst mér þingmenn Framsóknarflokksins einmitt haga sér þessa dagana...
Þjóðólfur

16. Júlí 2004

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: Núverandi stjórnarandstaða myndi næstu ríkisstjórn

Svo er hitt að Framsóknarflokknum á ekki að líðast að velja á milli vinstri og hægri aflanna og ráða þannig í reynd hverjir sitja við stjórnvölinn hverju sinni, vinstri menn eða hægri menn – en alltaf í samstarfi við Framsóknarflokkinn! Slíkt er ávísun á spillingu, því þannig flokkur er alltaf í aðstöðu sölumannsins sem jafnan spyr: Hver býður best? Farsælast þætti mér að núverandi stjórnarsamstarfi yrði slitið hið bráðasta – efnt til kosninga og síðan mynduð stjórn með vinstri slagsíðu. Haldi Framsóknarflokkurinn sínu striki og púkki áfram undir íhaldið þykir mér vel koma til greina að ...

16. Júlí 2004

New York Times biðst afsökunar

Þá er þriðji hópurinn sem ekkert viðurkennir og heldur áfram að berja höfðinu við steininn oft að því er virðist til að sýna ráðamönnum í Washington að þeir “bili ekki” eins og það var kallað í Sovét í gamla daga. Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands, vakti heimsathygli með yfirlýsingum sínum í Washington fyrir fáeinum dögum þegar hann lýsti því yfir að innrásin í Írak hefði verið öllum heiminum til góðs; heimurinn væri nú betri og öruggari en áður. Þetta eru barnalegar yfirlýsingar og dapurleg er sú tilhugsun að við skulum kynnt um víða veröld með þessum hætti. Leiðarinn í New York Times víkur að þeim hópi manna sem engum rökum tekur og segir...

15. Júlí 2004

Íslenskir hryggleysingjar og utanríkisstefna Bandaríkjanna

Ég þakka þér fyrir prýðisgrein um dapurlega innkomu Davíðs Oddssonar í heimsfréttirnar í tengslum við fund hans með Bush Bandaríkjaforseta. En hvað veldur því að forystumenn ríkisstjórnarinnar, þeir Davíð og Halldór Ásgrímsson, liggja flatir eins og hryggleysingjar fyrir herskárri og óhugnanlegri utanríkisstefnu Bush-stjórnarinnar? Auðvitað vita allir Íslendingar af uppdráttarsýkinni í herstöðinni á Miðnesheiði sem þeir Halldór og Davíð eru að reyna að halda lífi í og hanga á eins og hundar á roði. En er eitthvað ...
Guðmundur Sigurðsson

15. Júlí 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Er vinstri tími Halldórs að koma?

Halldór Ásgrímsson hefur rétt fyrir sér í því að stjórnmálaflokkar eigi ekki að flökta eftir skoðanakönnunum – þeir geta neyðst til að taka erfiðar ákvarðanir sem ekki eru til skammtíma vinsælda fallnar. Aftur á móti skjátlast honum hrapallega um það að Framsóknarflokkurinn eigi undir öllum kringumstæðum að flökta eftir Sjálfstæðisflokknum til þess eins að halda gangandi ríkisstjórnarsamstarfi. Þessa dagana verður þjóðin vitni að makalusri pólitískri endaleysu sem er hvort tveggja í senn til skammar fyrir Alþingi og minnkunar fyrir þjóðina. Til skammar fyrir þingið vegna ...

15. Júlí 2004

Er lýðræðið til trafala?

Menn ræða nú mikið um stjórnarskrána og rétt kjósenda til að kjósa. Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn sagði í sjónvarpsviðtali í kvöld að með því að nýta stjórnarskrárákvæði um málskotsrétt væri forseti Íslands að gera landið óstjórnhæft. Hvað er hér átt við? Gengur málskotsrétturinn ekki út á að skjóta umdeildum málum til úrskurðar hjá þjóðinni í þjóðaratkvæðagreiðslu? Verður landið óstjórnhæft ef þjóðin kemur meira að ákvörðunum stórra mála? Á þingmaður Sjálfstæðisflokksins ef til vill við það að skapa þurfi ...

15. Júlí 2004

Á hvaða vegferð er Morgunblaðið?

Birtist í Morgunblaðinu 14.07.04.
Það er rétt hjá Morgunblaðinu, að endanlega eru það kosningar sem skipta máli fyrir gengi stjórnmálaflokka. Í aðdraganda kosninga er hins vegar háð kosningabarátta þar sem fjármunir ráða miklu og er frægt að endemum þegar auglýsingastofan sem hafði Framsóknarflokkinn til meðferðar fyrir síðustu kosningar fékk sérstök verðlaun fyrir það afrek að pranga flokknum inn á kjósendur. Auglýsingahönnuðir þóttu hafa unnið sérstakt afrek og sýnt ótrúlega hugmyndaauðgi við að skapa flokknum ímynd sem gengi í kjósendur. Spyrja má hvort það hafi verið ímynd Framsóknar sem var kosin eða sjálfur flokkurinn af holdi og blóði ...

13. Júlí 2004

Davíð Oddsson kemst í heimsfréttirnar: "Heimurinn öruggari"

Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands hitti George W. Bush í Hvíta húsinu í Washington og er alsæll. Ekki svo að skilja að sýnilegur árangur hafi orðið af heimsókninni. Menn hafa nokkuð hent gaman að för Davíðs og barnslegri ánægju hans yfir því að hafa fengið að hitta þennan vin sinn, sem hann kallar svo. Fyrir Íslendinga er það hins vegar ekkert gamanmál  hvernig ráðamenn þjóðarinnar knékrjúpa ráðamönnum í Washington. Davíð komst í heimsfréttir fyrir tvennt...

12. Júlí 2004

Er lifandi hvalur betri en dauður?

Ágæti þingmaður. Þar sem þú ert þingmaður vinstri GRÆNNA langar mig til að spyrja þig tveggja spurninga: Hver er afstaða þíns þingflokks til núverandi vísindaveiða á hvölum? Hver er þín skoðun á hvalveiðum, almennt? Með fyrirfram þökk fyrir svar...
Virðingarfyllst,
Helgi V. Tryggvason

11. Júlí 2004

Mannréttindabrotum í Kína mótmælt

Eins fram hefur komið í fréttum er nú stödd hér á landi fjölmenn sendinefnd frá kínverska þinginu og fer varaforseti þingsins, Wang Zhaoguo, fyrir nefndinni. Á fundi fulltrúa þingflokkanna með sendinefndinni afhenti ég henni skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International um mannréttindabrot í Kína og rakti helstu efnisatriði skýrslunnar þar sem fjallað er um ofsóknir á hendur forsvarsmönnum úr verkalýðsbaráttu, trúarhreyfingum og þjóðernisbaráttu, t.d. Tíbet. Einnig vísaði ég til þeirra kafla í skýrslunni sem fjalla um dauðarefsingu, pyntingar, hlutdræg réttarhöld og ofsóknir af ýmsu tagi. Ég staðnæmdist við mál tveggja einstaklinga, Yao Fuxin og Xiao Yunliang frá Liaoyang í norðaustur Kína, sem hnepptir voru í varðhald í maímánuði á síðasta ári og síðan dæmdir í fangelsi. Annar hlaut ...

11. Júlí 2004

þEGAR FRAMSÓKN HVERFUR

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun:

Núna landsmenn fagnað fá
því Framsókn er að hverfa,
minni verður þjáning þá
hjá þeim sem landið erfa. 
 Kristján Hreinsson, skáld

10. Júlí 2004

Fréttir frá Ríkisútvarpinu eða kosningaskrifstofu Bush?

Í hádegIsfréttum Ríkisútvarpsins var sagt frá áformum George W. Bush Bandaríkjaforseta að endurskipuleggja leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, í ljósi þess að þaðan hefðu borist villandi upplýsingar um málefni sem tengjast Írak í aðdraganda innrásarinnar. Ljóst er að núverandi forseti og forsetaframbjóðandi Bandaríkjanna, George W. Bush, ætlar að reyna að þvo hendur sínar af ...

10. Júlí 2004

UNDANBRÖGÐ OG PRETTIR

Una slíku er ekki létt
og örðugt að trúa þeim fréttum,
að afnema hyggist þeir atkvæðisrétt,
með undanbrögðum og prettum.
Aðalsteinn Sigurðssson

10. Júlí 2004

Guðmundur R. Jóhannsson skrifar: Hugmyndaauðgi og snilldarlausnir

Svo fáum við að kjósa um þessi lög vorið 2007.  Ég ætla að vona að það verði sólríkur dagur sá kjördagur þegar flestir drífa sig  að kjósa um fjölmiðlalögin og hugsa ekki um nokkurn hlut annan.  Það er naumast að tilvonandi og fyrrverandi ætla að þjóðin sé langræk og væri svo sem allt í lagi ef sú yrði raunin.  En hvað á sá sjálfstæðismaður að gera, sem er algerlega á móti fjölmiðlalögunum en vill samt styðja flokkinn sinn áfram, eða vinstri grænn sem  sem væri fylgjandi þessum lögum en ...

9. Júlí 2004

Panikviðbrögð – í máli og myndum

Stjórnarmeirihlutinn er örvinlaður – í panik. Stjórnarþingmenn reyna að „leiðrétta“ ummæli sín aftur í tímann. Þar er frægastur af endemum Björn Bjarnason, sem kallaði fyrir mánuði þá stefnu sem ríkisstjórnin fylgir nú blekkingar og brellur. Hann varð síðan uppvís að því að reyna að breyta þessum ummælum á heimasíðu sinni. Í sama stíl er reynt að falsa frásagnir af mótmælum almennings. Þetta er ekkert nýtt. Útifundir hafa oft verið tilefni til æfinga af þessu tagi.Vilji menn gera lítið úr málstað er venjan sú að teknar eru myndir, helst með gleiðlinsu úr mikilli fjarlægð. Vefþjóðviljinn spreytir sig á fölsunum í dag og birtir meðfylgjandi mynd sem væntanlega er tekin í upphafi útifundar, sem Þjóðarhreyfingin boðaði í hádeginu á Austurvelli í gær, en þó ekki af sjálfum fundinum heldur á bak við hann...

9. Júlí 2004

Veni, vidi, vici í Washington

Já, forsætisráðherrann okkar, Davíð Oddsson, kom, sá og sigraði í Washington á 1800 sekúndna fundi með Bandaríkjaforseta og líflegum blaðamannafundi í kjölfarið. Eins og sekúndurnar allar segja til um gafst þeim félögunum færi á að ræða margt og merkilegt. Þeir fóru ítarlega yfir ástand heimsmálanna, þar á meðal sameiginleg viðfangsefni í Írak, auk þess að leita logandi ljósi að lausn á varnarmálum okkar Íslendinga og hugsanlegum grafalvarlegum loftvarnarskorti hérlendis vegna mikilla tilfallandi verkefna annars staðar. Á blaðamannafundinum var mikið um vinarhót og meira að segja strokur. Fannst mér nóg um hvernig...
Þjóðólfur

9. Júlí 2004

HIN HÁLFA ÞJÓÐ

Í daglegu starfi er þjóðin mín þreytt
þá þambar hún öl og vín,
yfirleitt skilur hún ekki neitt
en ofmetur verkin sín. ...

 Kristján Hreinsson, skáld

9. Júlí 2004

Halldór og Keikó

Heldur þú að Halldór og Keikó séu skyldir? Það var hægt að láta Keikó gera allt ef hann fékk fisk að launum. Það er greinilega hægt að láta Halldór gera allt ef hann fær forætisráðherrastól að launum. Þetta er kannski í ættinni... 
Eiríkur

8. Júlí 2004

Ný skýrsla um einkaframkvæmd í Bretlandi – vaxandi efasemdir

Á sama tíma og fréttir berast frá íslenskum sveitarfélögum um áhuga á einkaframkvæmd berast varnaðarorð frá Bretlandi um ágæti þessarar aðferðar við rekstur á stofnunum og verkefnum á vegum hins opinbera. Bresku verkalýðssamtökin, Unison, hafa birt ítarlega skýrslu um einkaframkvæmd sem vakið hefur mikla umræðu í Bretlandi. Einkaframkvæmd (Private Finance Initiative, PFI) byggir á því að einkaaðilar reisa og reka opinberar stofnanir á borð við skóla, sjúkrahús og fangelsi. Þeir sjá um fjármögnun en ríki eða sveitarfélög ábyrgjast greiðslur iðulega áratugi fram í tímann. Á undanförnum 12 árum hafa verið gerðir samningar af þessu tagi (563 samningar, 451 þegar í framkvæmd) að verðmæti 36 milljarða sterlingspunda ...

7. Júlí 2004

Washington og Kabúl

Þessu þarf nú að fara í saumana á og upplýsa verður þjóðina um hvað hér raunverulega er að gerast. Það verður ekki þolað að umræðulaust verði komið á fót íslenskum her. Það væri hins vegar eftir öðru hjá þessari ríkisstjórn og einhvern veginn passar þetta ágætlega inn í samhengið: Stjórnarskráin brotin, kosningaréttur skertur og komið á fót vopnuðum her...

7. Júlí 2004

Eiríkur Jónsson skrifar: Sea world

Fyrir nokkrum árum fór ég í sædýragarð í Orlando sem heitir Sea world. Eitt af því sem þar var boðið upp á til skemmtunar voru háhyrningar sem höfðu verið tamdir og hlýddu þeir í einu og öllu því sem umsjónarmennirnir fóru fram á. Mig minnir að þeir hafi verið rúmlega 30 að tölu, sennilega 31. Allir syntu þeir í takt, stukku upp í loftið þegar það átti við, skvettu þegar það átti við og földu sig þegar það átti við. Tamningamennirnir voru tveir og stóðu þeir gjarnan ...

6. Júlí 2004

Meira vit

Vegna ummæla Halldórs Ásgrímssonar:
,,Sá vægir sem vitið hefur meira". Varð þessi vísa til:
 
Á Íslandi nú á sér stað
ótakmarkað þvaður
því Halldór Ásgríms heldur að
hann sé greindur maður.
 
Kristján Hreinsson, skáld

6. Júlí 2004

Seinheppinn Hjálmar eða illa upplýstur?

Á heimasíðu Framsóknarflokksins birtist í dag einkar athyglisverðar hugleiðingar formanns þingflokks Framsóknar, Hjálmars Árnasonar. Þar er fullyrt að aðeins eitt mál verði á dagskrá þingsins, lagasetning um þjóðaratkvæðagreiðslu. Gleymdi Halldór að upplýsa Hjálmar um nýja útspilið? Hjálmar segir orðrétt:  ,,Aðeins eitt mál er á dagskrá: Lagasetning um þjóðaratkvæðagreiðslu. Af orðræðum ýmsum má ætla

6. Júlí 2004

Hver vægir og hvar er vitið?

Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson komu saman fram í fjölmiðlum sunnudagskvöldið 4. júlí til að (reyna að) skýra fyrir þjóðinni síðustu uppákomu hjá þeim tvímenningum, að þessu sinni fjölmiðlafrumvarpið í nýjum umbúðum en nánast sama frumvarp. HÁ vitnaði í gamla íslenska málsháttinn af þessu tilefni og sagði: "Sá vægir sem vitið hefur meira". Síðan hefur það verið viðfangsefni þjóðarinnar að reyna að átta sig á hver er að vægja og ekki er það mönnum síður ráðgáta að grafast fyrir um hvar vitið sé að finna í Stjórnarráði Íslands. Auðvitað þarf að...

5. Júlí 2004

Augljóst brot á stjórnarskránni!!!

Af nýjustu fréttum má ráða að stjórnarherrarnir hafi hugsað sér að ekki verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hin svokölluðu fjölmiðlalög sem Alþingi samþykkti nýverið og forseti Íslands kaus síðan að undirrita ekki. Þetta væri AUGLJÓST BROT á 26. grein stjórnarskrárinnar sem einmitt ...
Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur

5. Júlí 2004

Herrar hrapa


Sigurinn er sætur mjög,
úr söðli herrar hrapa,
þeir ætl' að setja önnur lög
án þess þó að tapa.
 
Kristján Hreinsson, skáld

5. Júlí 2004

Ummæli um forsetaembættið ekki rökstudd?

Ég sperrti eyrun þegar þú svaraðir spurningu fréttamanns Sjónvarpsins um það álit þitt að kónga- og auðmannadekur hafi keyrt úr hófi fram á Bessastöðum og hélt að þú myndir útskýra hvað þú ættir við. En - ég varð engu nær. Mér finnst að þú eigir að rökstyðja mál þitt og ekki að slá svona sjónarmiðum fram nema að nefna dæmi svo maður geti vitað hvað þú átt við. Að mínu áliti stendur forsetinn sig vel í þeim verkum sem mér finnst við þurfa forseta til að sinna, þ.e. að vera fulltrúi þjóðarinnar út á við. Ég hef persónulega enga þörf fyrir forseta sem sameiningartákn eða samnefnara þjóðarinnar en ég tel að við þurfum toppfígúru til að ...
G.J.

5. Júlí 2004

Með skottið milli fóta

 
Með döngun hunds og dýrsins kjark
fær Davíð lífs að njóta,
hann skríður einsog skeppna í mark
með skottið milli fóta.
 
Kristján Hreinsson, skáld

5. Júlí 2004

Brellur Björns Bjarnasonar

Í ljósi þeirra atburða sem nú eru að gerast er vert að láta hugann reika aftur í tímann – ekki mjög langt – og gaumgæfa hvað ríkisstjórnin og einstakir ráðherrar hafa sagt að undanförnu. Hvað til dæmis með þessi ummæli Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra á vefsíðu hans 3. júní síðastliðinn: "Hvað sem þessum skoðunum líður ... er ljóst, að sú skylda hvílir á okkur ráðherrum að framfylgja ákvæðum stjórnarskrárinnar og efna eins fljótt og kostur er til þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég sé, að vísu, að Sigurður Líndal, fyrrverandi prófessor, sem helst hefur lagt sig fram um að lýsa yfir persónulegu valdi forseta til að skjóta málum til þjóðarinnar, lætur nú eins og alþingi geti bara breytt lögunum og þannig komist hjá því, að þjóðin segi álit sitt á þeim. Ef slíkum brellum yrði beitt, er ég hræddur um, að einvers staðar mundi heyrast hljóð úr horni". Úr hvaða horni Björn og gætirðu tjáð þig nánar um brellurnar?

4. Júlí 2004

Hann Ólafur er líka okkar maður!

Ég þakka þér fyrir stórgóða grein um forsetaembættið en það er þó að mínum dómi stór ljóður á annars ágætu ráði þínu þegar þú ferð að tala um kónga- og auðmannadekrið á Bessastöðum. Dettur mér helst í hug að þú sért þarna að vísa m.a. til vinskapar forsetans við Abramovits hinn rússneska, Björgólfsfeðga, skíðatúranna til Aspen og þannig mætti áfram telja. En hvað hefur þú við þetta að athuga, ef ég er að geta mér rétt til? Tökum ...
Bjartur

3. Júlí 2004

Tyggigúmmíkenningin endurmetin

Ég neita því ekki að heldur þótti  mér tyggigúmmíkenningin, sem þú varst einhvern tímann að gantast með hér á síðunni, vera á jaðri aulafyndninnar og reyndar alveg út í hött. Það þykir mér ekki lengur. Ef ég man rétt þá gekk kenningin út á það, að eðli Framsóknarflokksins – í stjórnarsamstarfi við Íhaldið -  svipaði til vel tugginnar tyggigúmmíklessu sem spýtt væri niður í gangstétt en festist síðan undir skósóla vegfaranda. Þegar gengið hefði verið á slummunni um hríð væri illmögulegt að ná henni undan sólanum. Ég fæ ekki betur séð en Davíð Oddsson sé að leika sér að því að ögra Framsókn og niðurlægja ...
Jóel     

3. Júlí 2004

Eru fjölmiðlalögin stjórnarskrárbrots virði?

Birtist í Morgunblaðinu 01.07.04.
Nú spyr ég. Er þetta mál ekki útkljáð? Starfshópur sem skipaður er af hlutdrægum málsaðila, þeim sem vill setja atkvæðagreiðslunni skorður, kemst að þeirri niðurstöðu, að jafnvel þótt hann telji "rík efnisleg rök" fyrir slíku, þá sé það vafa undirorpið, "ekki vafalaust",  að slíkt stæðist stjórnarskrá. Hitt er augljóst að almennar kosningareglur, þar sem gildir einfaldur meirihluti, stæðist ótvírætt stjórnarskrána. Um það deilir enginn. Er ekki augljóst að við veljum þann kostinn? Ef menn síðan ...

3. Júlí 2004

Tímabær umræða um verktakagreiðslur

Hvatning til umræðu af þessu tagi kom nýlega fram í Morgunpósti VG (http://www.vg.is/postur). Þar kom fram ákall um að verkalýðshreyfingin taki það föstum tökum þegar launafólki er þröngvað inn í slíkt verktakafyrirkomulag. Á það var bent að ungt fólk láti stundum glepjast af  "verktakatilboðum" atvinnurekenda enda eru launin gjarnan örlítið hærri en kveðið er á um í almennum launatöxtum en á móti kemur að réttindi eru nánast engin. Þegar einstaklingurinn t.d. veikist er hann réttlaus. Þegar dæmið er gert upp eru kjörin miklu lakari hjá verktakanum en launamanninum. Því miður er það ekki svo gott að fólk standi frammi fyrir vali ...

2. Júlí 2004

Söguskýring Halldórs Ásgrímssonar: "Það vildu allir fara á þingvöll 17. júní."

Formaður Framsóknarflokksins hlýtur að hafa slegið einhver met í söguskýringum í fréttaviðtölum í gær. Fernt  stendur upp úr. Í fyrsta lagi sú stórfenglega söguskýring að ekki hafi gefist tóm til að ganga frá stjórnarskrá því mönnum hafi legið svo á að komast á Þingvöll árið 1944! Þetta eru makalaus ummæli. Stjórnarskrárdrögin höfðu verið til ítarlegrar umfjöllunar í milliþinganefndum og á Alþingi áður en frá þeim var gengið. Í öðru lagi segir að vegna þess að enginn þingmaður hafi flutt tillögu um framkvæmd kosninga "sannar það" samkvæmt fullyrðingu Halldórs...

2. Júlí 2004

Þingmenn með 42,34% fylgi samþykktu fjölmilðalögin!

Varðandi þetta mál sérstaklega er því vert að skoða, hversu margir kjósendur standa að baki þeim þingmönnum sem samþykktu margumtalað frumvarp um fjölmiðlalög nú í vor....
Sveinn

1. Júlí 2004

Bláhenda

Með klækjum hafa karlar reynt
að krækja í þann stóra,
þeir halda að 'ann hafni seint
í höndunum á Dóra.
 
 Kristján Hreinsson, skáld

1. Júlí 2004

Halldór á hótelherbergi?

För þeirra Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, og Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra á NATÓ fund í Istanbúl hefur ekki farið framhjá neinum. Yfirlýsingar þeirra hafa verið í sama dúr og áður við sömu aðstæður, botnlaus fylgispekt við hernaðarbandalagið og allt sem aðhafst er á þeim bæ. En það voru yfirlýsingar þeirra um kosningalögin sem vöktu athygli mína, sérstaklega það sem haft var eftir Halldóri á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudag. Hann sagði ...
Hafsteinn Orrason

1. Júlí 2004

Sveinn Aðalsteinsson skrifar: Rýnt í tölur

Ef lágmark til að fella lögin væri sett við að andstæðingar væru yfir 50% þeirra sem á kjörskrá eru, væri möo gerð krafa um 67% andstöðu við frumvarpið! Ef hinsvegar væri miðað við kosningaþátttökuna í forsetakosningunum um síðustu helgi og ekki gefinn kostur á að greiða utankjörfundar væru samsvarandi hlutföll : 63% - 15% (sem næmi áætluðu atkvæðamagni utankjörstaða) = 53,5%. Krafan um að yfir 50% þýddi í því tilfelli að 93,5% kjósenda yrðu að hafna frumvarpinu! Þetta eru nú aldeilis LÝÐRÆÐISSINNAR í lagi ! ...

1. Júlí 2004

Á að halda fundinn í kyrrþey?

Það vakti athygli mína í fréttum af undirbúningi þinghaldsins í næstu viku að ekki standi til að sjónvarpa frá Alþingi eins og venja er. Fram kom að sjónvarpað verður í innanhúskerfi þingsins en hvers vegna í ósköpunum útsendingunni verður ekki varpað út í samfélagið er mér óskiljanlegt með öllu. Eða hvað – þykir ríkisstjórninni ef til vill ...
Sunna Sara

30. Júní 2004

Sjálfstæðisflokkurinn, Morgunblaðið, forsetaembættið og framtíð þess

Morgunblaðið hefur lengi verið langöflugasta og stærsta dagblað á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn er að sama skapi stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Báðir aðilar voru hins vegar smáir í sér í nýafstöðnum forsetakosningum. Reyndar var smæð þeirra slík að almennt rak fólk í rogastans. Stærð getur verið huglæg. Styrkur Sjálfstæðisflokksins hefur að nokkru leyti legið í þeirri ímynd hans að hann sé stór og búi í krafti stærðar yfir festu og stöðugleika. Sama gildir um Morgunblaðið. Þegar sú ímynd er brotin þá láta afleiðingarnar ekki á sér standa. Framferði Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins mun smækka báða aðila til lengri tíma litið. Þeir létu ...

30. Júní 2004

Steig hann á tær forstöðumanna kaupfélagsins?

Kristján Hjelm sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Hólahrepps fær góðar umsagnir þeirra sem DV leitaði til í athyglisverðri fréttaumfjöllun blaðsins um málefni sparisjóðsins. Undir verkstjórn Kristjáns hafa umsvif sparisjóðsins stóraukist og sjóðurinn á alla lund dafnað. Kristján þykir og mikill og einarður sparisjóðsmaður og hefur það því vakið furðu manna að hann sé nú þvingaður til að láta af störfum. Velta menn því fyrir sér hvað hann hafi unnið sér til óhelgi. Gæti það verið að hann hafi ...

30. Júní 2004

Ein sem skýrir sig sjálf

Einsog stagbætt stjórnarskrá
sem Styrmir þarf að dæma
marga spretti Mogginn á
misjafnlega slæma.
 
Kristján Hreinsson, skáld

29. Júní 2004

Virðing í anda Morgunblaðsins

Það er sú almenna og grímulausa mannfyrirlitning sem fram kemur í orðum ritstjóra Morgunblaðsins sem fékk mig til skilja við blaðið. Satt best að segja fór um mig hrollur þegar ég las pistil hans 17. júní. Ég geymi þetta síðasta Morgunblað sem ég kaupi. Ég geymi það til að minna mig á að stalínísk rétthugsun getur flutt inn á hvaða heimilisfang sem er og ég geymi það til að minna mig á að undir orðskrúði og kröfunni um ákveðið siðferði annarra lúrir stundum svipuð afstaða til almennings og ríkjandi var í fjarlægu landi fyrir miðja síðustu öld. Ég er hvorki heimsfræg né fyrrverandi forseti og hvorki ég né fjölskylda mín eru í þeim meirihluta sem Morgunblaðinu finnst að ekki geti gert kröfu um að sýnd sé virðing og tillitssemi í opinberri umræðu. Ég er núlifandi og...
Ólína

29. Júní 2004

Glæsilegur sigur Ólafs!

...og þar sem ég er gamall nemandi dr. Ólafs Ragnars í stjórnmálafræðunum, og kann því ýmislegt fyrir mér þó ég segi sjálf frá, vil ég minna á eitt mikilvægt atriði sem fræðimönnum og álitsgjöfum hefur yfirsést – og móðga þó vonandi engan - en það eru forsetakosningarnar árið 1952. Þær sýna í hnotskurn, og í sögulegu samhengi sem er auðvitað ómissandi sjónarhorn, hve glæsilegt endurkjör Ólafs er í raun og veru. Þannig var að árið 1952 slógust ...
Auður Sigurrós Arnardóttir

29. Júní 2004

Enn atlaga að sparisjóði - lagasetning verði könnuð

Í DV í dag er slegið upp á forsíðu átökum um Sparisjóð Hólahrepps og tilraunum forsvarsmanna Kaupfélags Skagfirðinga að ná sjóðnum undir sig. Nokkra athygli vakti í tengslum við SPRON málið í upphafi árs og lagabreytingar í kjölfarið að kaupfélagsstjórinn á Sauðárkróki, sem jafnframt er stjórnarformaður VÍS, Þórólfur Gíslason, beitti sér í nafni kaupfélagsins við Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis að gerðar yrðu breytingar á lögum sem auðvelduðu  kaupfélaginu yfirtöku á Sparisjóði Hólahrepps. Um þetta...

29. Júní 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Er stjórnarandstaðan stressuð?

Stjórnarandstaðan ætti að slaka meira á yfir þessum hugmyndum og kanna hvaða kostir kunni að felast í þeim. Segjum að sett verði almenn regla um að í svona tilvikum þurfi fleiri kosningabærir menn en ráðandi þingmeirihluti hefur á bak við sig að greiða atkvæði gegn lögunum til að fella þau. Í þeirri reglu felast gríðarleg tækifæri fyrir stjórnarandstöðuna og reglan ætti að öllu jöfnu að hleypa geysilegu lífi í undirbúninginn og skapa kraftmikla kosningabaráttu. Þar að auki er ...

29. Júní 2004

Davíð dýrkar Bush

Sæll Ögmundur
Glaðhlakkalegir voru þeir fóstbræður Davíð og Bush á fundi í Istanbúl. Úr augum Davíðs skein aðdáun þegar hann leit með eigin augum þessa einstæðu fyrirmynd.

Davíð Oddsson dýrkar Bush,
það dæmalausa undur,
við böðulinn hann bindur trúss
bljúgur einsog hundur.

Kristján Hreinsson, skáld

28. Júní 2004

Skilyrtar undirtektir

Ég er hjartanlega sammála Steingrími Ólafssyni í því sem fram kemur í prýðilegri grein hans hér á síðunni 24/6 undir fyrirsögninni Tvígengisvélin hikstar. Það er rétt hjá honum að póltitískur mótor þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar hikstar heldur betur. Sennilega og vonandi er hann að bræða úr sér. Ég er líka sammála þér Ögmundur að vinstri menn eiga að semja við Samfylkingarkratana um myndun næstu ríkisstjórnar, jafnvel gera kosningabandalag einsog Steingrímur Ólafsson leggur til. En við megum ekki gera þetta ...
Sunna Sara

28. Júní 2004

Guðmundur R. Jóhannsson skrifar: Að tapa með glæsibrag

Þá eru forsetakosningar að baki og hirð forsætisráðherra komin á handahlaup við að sanna að forsetinn hafi gjörtapað kosningunum. Að stuðningur 85% gildra atkvæða eða ef við viljum heldur 67% stuðningur þeirra sem komu á kjörstað sé stórtap, reiðarslag eins og forsætisráðherra sagði í vímu NATO fundar í lýðræðisríkinu Tyrklandi, er fyrir ofan minn skilning, en ég hef nú heldur ekki mikinn skilning. Svo er allt í einu farið að tala um hlutfall af þeim sem voru á kjörskrá. Ég man að vísu ekki eftir að það hafi verið gert áður, en ...

28. Júní 2004

Er ríkisstjórnin að fara á taugum eða er hún bara á móti lýðræði?

Davíð er löngu hættur að koma á óvart. Líka Halldór. Þeir tveir eru eins útreiknanlegir og Baldur og Konni voru á sinni á tíð; mjög samrýmdir og töluðu alltaf einum rómi. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra hefur hins vegar óneitanlega komið ögn á óvart. Fram til þessa hefur hann nefnilega yfirleitt komið fram af yfirvegun. Nú talar hann af offorsi fyrir takmörkun á rétti þjóðarinnar til að útkljá mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Geir kom fram í sjónvarpi í kvöld, miðaði og skaut – sjálfan sig beint í fótinn. Geir H Haarde sagði að...

26. Júní 2004

Öryggistilfinning Bandaríkjaforseta

Á forsíðu Fréttablaðsins í dag segir frá Írlandsheimsókn Bush Bandaríkjaforseta undir yfirskriftinni Heimurinn er öruggari en áður. "Ég trúi því að heimurinn sé öruggari staður", er orðrétt haft eftir forsetanum og ástæðan að sjálfsögðu sú, að hans sögn, að ráðist var á Afganistan og Írak. Eftir þessar innrásir sé heimurinn öruggari. Bush hefur viðdvöl á Írlandi í tæpan sólarhring á leið sinni til Tyrklands á NATO fund. Í DV kemur svo skýringin á þessari miklu öryggistilfinningu Gerorgs Bush. Þar segir frá ...

25. Júní 2004

Það var aldrei kosið um Kárahnjúkavirkjun!

Var minnst á Kárahnjúkavirkjun fyrir kosningarnar vorið 1999? VG var stofnað 6. febrúar 1999. Man einhver sem tók þátt um hvað kosningabaráttan snerist  það árið? Var verið að kjósa um Kárahnjúkavirkjun? Mér vitanlega var hún ekki á dagskrá þá. Eftirfarandi fór á milli spyrjanda og Ólafs Ragnars Grímssonar í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 21. júní ...
Pétur

25. Júní 2004

Auður – glæsilegur og verðugur fulltrúi þjóðarinnar

Það er mér mikið undrunarefni sem fram kemur í pistli Þjóðólfs hér á síðunni þar sem hann segist ekki hafa frétt af framboði frú Auðar Bessadóttur til forsetaembættisins fyrr en í gær. Framboð sitt boðaði Auður á blaðamannafundi í Öskjuhlíðinni á sumardaginn fyrsta, 22. apríl s.l. Og einmitt þá var meðfylgjandi mynd tekin af frambjóðandanum og áströlskum maka hans. Beðist er velvirðingar á rauðum deplum í ...
Ingólfur

24. Júní 2004

Er Auður á leið til Bessastaða?

Svo lítið hefur farið fyrir forsetaframbjóðandanum Auði að ég hafði ekki hugmynd um framboð hennar fyrr en í morgun þegar ég renndi yfir skoðanakönnun Fréttablaðsins. Þar stimplar frú Auður sig inn með eftirminnilegum hætti og nýtur nú hvorki meira né minna en ...
Þjóðólfur

24. Júní 2004

Steingrímur Ólafsson skrifar:Tvígengisvélin hikstar

Þær raddir verða háværari sem krefjast raunverulegra breytinga og segja einfaldlega: Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin og VG eiga að ganga til næstu Alþingiskosninga sem kosningabandalag, þar sem tekist verður á um hvort fólk vill óbreytt ástand eða nýjar áherslur. Stolt kosningabandalag, sem gengi til kosninga bundið af stjórnarsáttmála, þar sem fram kæmu þær áherslur og málefni sem flokkarnir myndu vinna eftir er þeir kæmust til valda. Glæsilegt kosningabandalag sem hefði skýra stefnu og þyrði að bjóða fram raunverulegan valkost gegn því afturhaldi sem nú er við völd. Að sjálfsögðu gerir fólk sér grein fyrir að...

24. Júní 2004

Hvað er framundan?

Það vekur óneitanlega athygli hve samdóma álit það er manna á meðal að núverandi ríkisstjórn sé komin að fótum fram. Það er óalgengt um rúmlega ársgamla stjórn að á hana sé litið sem háaldraða. Í dag skrifar Steingrímur Ólafsson athyglisverðar vangaveltur í frjálsum pennum um hvað hann telji æskilegt að taki við að afloknum næstu kosningum. Steimgrímur er fyrrverandi formaður VG í Reykjavík og talar án efa fyrir munn mjög margra. Væru stjórnarandstöðuflokkarnir tilbúnir að mynda kosningabandalag í komandi kosningum spyr Streingrímur. Sjálfur er hann þeirrar skoðunar og spyr hann mig um afstöðu mína til þessa. Þessu er auðsvarað af minni hálfu. Allar götur frá því ég...

23. Júní 2004

Vilja bæta Davíð

Í DV segir frá því að deilur hafi blossað upp milli Sumarliða Ísleifssonar, ritstjóra Stjórnarráðssögunnar og Jakobs F. Ásgeirssonar, þess manns sem ritar kaflann um Davíð Oddsson. En þeir deila víst um innihald kaflans um Davíð. Að þessu tilefni verð eftirfarandi bláhenda til:
 
Mjög er deilt hjá mönnum tveim,
þeir mikið vilja þræta
því sögu Davíðs sýnist þeim
að sífellt megi bæta.
 
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld

23. Júní 2004

Flottur Valgarður

Mikið fjölmenni var við opnun málverkasýningar Valgarðs Gunnarssonar, myndlistarmanns í Munaðarnesi á laugardag og var félagsmiðstöðin í orlofsbyggðum BSRB full út úr dyrum. Anna Kristín Arngrímsdóttir, leikkona las ljóð og Álftagerðisbræður sungu. Að venju var boðið upp á veitingar í samvinnu við Unni Ágústsdóttur, sem rekur veitingastaðinn í Munaðarnesi. Fólk kom víða að til þessarar menningarhátíðar en greinilegt er að fólk úr nærliggjandi sveitum sækir þessar árlegu hátíðar BSRB reglulega...

22. Júní 2004

Forsetinn vill að þjóðin blessi fjölmiðlalögin!

Hann sagðist með gjörningi sínum hafa viljað leyfa þjóðinni að “blessa” þessi lög  líkt og gjörðist í þjóðaratkvæðagreiðslunni um stofnun lýðveldis á Íslandi árið 1944. Hvaða merkingu leggur þú í þessi orð forsetans? Ég hélt satt að segja að hann hefði beitt synjunarvaldinu vegna þess að hann hefði talið lögin geta verið háskaleg lýðræðinu ...
Þuríður Ófeigsdóttir

21. Júní 2004

Bláhenda

Í dag fréttist að Jón Steinar Gunnlaugsson ætli að sækjast eftir því að komast að sem dómari í Hæstarétti. Það vakti sérstaka athygli undirritaðs að Jón skyldi láta hafa það eftir sér að hann gæti ekki ímyndað sér að það væri nokkrum manni á móti skapi að hann fengi að gerast hæstaréttardómari.
Að gefnu tilefni varð til þessi bláhenda:

Fæstir reiða refsivönd
og ranglætinu svara
þegar Davíðs hægri hönd
í Hæstarétt vill fara.

Kristján Hreinsson, skáld

20. Júní 2004

Nei Ólafur, nei

Í sunnudagsmogga sitja forsetaframbjóðendur fyrir svörum. Þeir svara ágætlega fyrir sig, ekki síst Ólafur Ragnar. Vanur maður. Af hverju er núverandi forseti stoltastur frá átta ára forsetaferli sínum, spyr blaðamaður. Ólafur Ragnar Grímsson hefur upp mikla frásögn af því sem hann telur að vel hafi tekist til um. Hann hafi til dæmis stuðlað að framgangi íslenskra listamanna. Ágætt, prýðilegt. En í sömu setningu er upptalningunni haldið áfram, hann hafi...
Hafsteinn Orrason

20. Júní 2004

Bandaríkjaforseti: fífl eða fól?

Vel á minnst. Þeir Davíð og Halldór eru sannarlega í hópi þeirra manna sem allra minnsta meðvitund hafa um það sem er að gerast í kringum þá nema þeir séu algerlega samdauna valdaklíkunni í Washington, einhverri harðsvíruðustu ofstækisklíku heimsvaldasinna, sem þar hefur ráðið um langt árabil. Nú hefur rannsóknarnefnd á vegum Bandaríkjaþings komist að þeirri niðurstöðu að engin tengsl hafi verið á milli al-Queada og Saddams Husseins en þessi tengsl voru ein höfuðréttlætingin á árasinni á Írak. Bush Bandaríkjaforseti átti ekki í miklum vandræðum við að bregðast við þessari skýrslu...

18. Júní 2004

Evrópusinnar – en gagnrýnin

Á nýafstöðnu þingi EPSU (European Public Service Union, Starfsfólk í Almannaþjónustu innan Evrópusambandsins og EES) í Stokkhólmi í vikunni kom fram harðari tónn frá forsvarsmönnum verkalýðshreyfingarinnar og gagnrýnni í garð Evrópusambandsins en fram hefur komið í langan tíma. Tilefnið er ný tilskipun um þjónustustarfsemi, sem nú er í smíðum og telja menn sýnt að henni sé stefnt gegn samfélagslega rekinni velferðarþjónustu...

18. Júní 2004

Menning í Munaðarnesi


BSRB sýnir það framtak á hverju sumri að efna til Menningarhátíðar í orlofsbyggðum bandalagsins í Munaðarnesi. Opnuð er málverkasýning sem síðan stendur allt sumarið og er það Valgarður Gunnarsson sem sýnir að þessu sinni. Álftagerðisbræður munu syngja og Anna Kristín Arngrímsdóttir leikkona verður með upplestur.

17. Júní 2004

Á öskuhaugum sögunnar

Íslenskan hefur á ýmsum sviðum breyst svo hratt að hinir mætustu menn hafa lent í dómstólaveseni vegna rangrar hugtakanotkunar. Ekki fyrir svo mörgum árum var t.d. óspart talað um skattsvik og skattsvikara og var það hugtak notað um menn sem reyndu að skjóta sér undan að greiða þau gjöld til samfélagsins sem þeim bar. En nú heyra skattsvikin, sem ég er enn vel að merkja fastur í og nota í tíma og ótíma, sögunni til. Nú er talað um áætlaða “skattakvöð vegna hugsanlegra skattbreytinga” eins og segir til að mynda í Fréttablaðinu 12. júní s.l. En í fréttinni kemur skýrt fram að...
Þjóðólfur

17. Júní 2004

Orðin dauð

Að gefnu tilefni:
Davíð masar, dýrkar auð,
drýldinn hrasar víða,
ómerkt þras og orðin dauð
ávallt fasið prýða.

Kristján Hreinsson, skáld

17. Júní 2004

Norrænir kratar eru stoltir af að hafa stundað einelti

Í flugvél fékk ég í hendur bók eftir Johan Ehrenberg, sem ber áhugaverðan titil: Sósíalisminn, vinur minn. Ekki gafst tóm til að lesa alla bókina en á nokkrum stöðum var borið niður. Er réttlætanlegt að verja lýðræðið með ólýðræðislegum aðferðum? Þannig spyr höfundur. Hann vitnar í sjálfumglaða grein, sem Sten Anderson, fyrrverandi utanríkisráðherra Svía og framkvæmdastjóri Sósíaldemokrataflokksins sænska, skrifaði í Aftonbladet 1998, eða öllu heldur...

17. Júní 2004

Skýrir sauðargæran lélega kosningaþátttöku í Evrópusambandsríkjunum?

Í dag lauk í Stokkhólmi þingi EPSU ( Samtaka Launafólks í Almannaþónustu innan Evrópusambadsins og Hins Evrópska Efnahagssvæðis). Ráðstefnan var frjó og gefandi. Flest aðildarsamtökin eru innan Evrópusambandsins og reyna af alefli að hafa áhrif á það sem þar gerist. Ég hef fylgst nokkuð vel með umræðunni innan þessara samtaka um árabil og finn fyrir vaxandi óánægju með tvennt: Annars vegar er það gagnrýnt að Evrópusambandið (ESB) gangi erinda fjármagns- og atvinnurekendavalds og hins vegar er vaxandi kurr út af óheiðarlegum málflutningi...

16. Júní 2004

"Bolkenstein / Frankenstein"

Það er ekki tekið út með sældinni að heita Fritz Bolkenstein. Það er að vísu ekki bara nafnið sem veldur, heldur það sem þessi verkstjóri Evrópusambandsins við smíði nýrrar tilskipunar um þjónustustarfsemi, þykir hafa á samviskunni. Tilskipunin gengur út á að útvíkka hugtakið "þjónustu" þannig að það teygi sig inn á svið hefðbundinnar velferðarþjónustu en þar með væri opnað fyrir markaðsvæðingu hennar...

15. Júní 2004

Dr. Gunnar Kristjánsson skrifar: Hryðjuverk og pólitískt vald

Hryðjuverk setja svip á hina pólitísku umræðu samtímans. Tíðindum af skelfilegum hermdarverkum linnir ekki, myndir blasa hvarvetna við af eyðileggingu, þjáningum og blóðsúthellingum. Í slíkum aðgerðum eiga margir hlut að máli: skæruliðahópar, einræðisherrar og lýðræðislega kjörin stjórnvöld leggja þar öll hönd á plóginn. Á þessari heimasíðu hafa menn velt því fyrir sér hvort unnt sé að setja hryðjuverk undir einn hatt: eru hryðjuverk Palestínuaraba réttlætanlegri eða jafnvel “göfugri” en hryðjuverk Ísraelsmanna? Eða eru þau sama eðlis, unnin af svipuðum hvötum í sama tilgangi? Hvaða hugmyndafræði er að baki hryðjuverkum í nútímanum? Geta hryðjuverk yfirleitt átt rétt á sér? Spurningum af þessu tagi er ekki auðsvarað en þær eru svo sannarlega þess virði að um þær sé fjallað...

14. Júní 2004

Mikilvæg viðskipti fyrir búlgörsku þjóðina?

Í Svíþjóð þar sem ég er staddur þessa dagana hefur mikið verið fjallað um Búlgaríu í aðdraganda þess að Búlgarir og Svíar háðu kappleik í knattspyrnu. Búlgarir riðu ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. Þetta var þó bara saklaus fótboltakeppni. Öðru máli gegnir um viðureign Búlgara við erlenda fjármálamenn. Þar er meiri alvara á ferðum. Í grein sem birtist í Svenska Dagbladet í dag segir að erlendir "fjárfestar" fari nú mikinn í Búlgaríu og hugsi þar...

13. Júní 2004

Heimskan á sér engin takmörk

Kæri Ögmundur.
Rétt til gamans langar mig að benda á eftirfarandi dæmi sem sýnir hversu fáránleg hugmynd það er að krefjast meira en 50% þátttöku við atkvæðagreiðslur yfirleitt. Gerum ráð fyrir því að kjósa eigi milli tveggja ólíkra kosta sem ég vel að kalla A og B. Gerum ráð fyrir því að settar verði reglur um það að a.m.k. 75% kosningabærra manna verði að taka þátt í kosningunni til þess að niðurstaða hennar teljist gild.Gerum síðan ráð fyrir því að...
Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur

13. Júní 2004

Að gera einfalda hluti flókna

Birtist í Morgunblaðinu 12.06.04.
Á margumtöluðum fundi fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna sl. þriðjudag með oddvitum ríkisstjórnarflokkanna var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla á dagskrá. Fyrir stjórnarandstöðunni vakti það fyrst og fremst að tryggja breiða samstöðu um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar. Umræður hófust um málið, rætt um það hvenær þing kæmi saman og hvort hægt væri að ná samkomulagi um hversu lengi það skyldi standa. Í framhaldinu var á það bent að það hlyti að vera ...

13. Júní 2004

Ráðherra á raðgreiðslum?

Eina skýringin sem mér datt í hug hérna við eldhúsvaskinn var að hann gengi með. Gengi með ráðherra í maganum og væri jafnvel búinn að fá boð um að næla sér í einn svoleiðis á raðgreiðslum. Gæti það verið Ögmundur?...
Ólína  

11. Júní 2004

Tekist á um framtíð almannaþjónustunnar

Að mínu mati eru Public Services International (PSI), Alþjóðasamtök starfsfólks í almannaþjónustu, kröftugustu alþjóðasamtök launafólks starfandi í heiminum. Þessi samtök hafa beitt sér fyrir úrbótum og framförum innan almannaþjónustunnar og barist gegn einkavæðingu af miklum krafti. Engin samtök hafa átt í eins mikilli gagnrýnni samræðu við Alþjóðagjaldeyrisssjóðinn og Alþjóðabankann.

10. Júní 2004

Dæmigert fyrir Alþingi?

Samkvæmt nýjum fréttum er fram komin tillaga, soðin saman af Birni Bjarnasyni og Guðna Ágústssyni, þar sem þeir mæla með að í atkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin yrði krafist 75% þátttöku kosningabærra manna. Ef þátttaka væri minni væri tillagan fallin. Ef þessi háttur væri á hafður þyrfti ekki einu sinni að telja atkvæðin ef 25.1% kjósenda skiluðu sér ekki á kjörstað. Málið væri úr sögunni vegna ónógrar þátttöku, jafnvel þó öll greidd atkvæði kosningabærra manna féllu á annan veginn. Ég er að velta fyrir mér hvort ...
Benedikt Sigurðsson.

10. Júní 2004

Ógnar þjóðin þingræðinu?

Lýðræði getur haft ýmsar takmarkanir. Enski heimspekingurinn og stjórnmálamaðurinn John Stuart Mill varaði okkur við því í frægri bók sinni Frelsinu að misbeita almannavaldi gegn minnihlutahópum. Þetta er rétt grundvallarregla en að mínu mati ekki algild. Það er nú að sannast fyrir augunum á okkur.  Hér á landi er sprottinn fram minnihlutahópur, sem telur sig eiga í vök að verjast. Þetta eru sjálfskipaðir verjendur þingræðis. Þeir telja að nú sé vegið að skjólstæðingi sínum, Alþingi. Og hver skyldi vega að þinginu? Það er...

10. Júní 2004

Á ekki að mótmæla öllum hryðjuverkum jafnt?

Telur þú að eigi að mótmæla hryðjuverkum í Ísrael framin af Palestínumönnum af sama krafti og einurð eins og gert er við hernaðar aðgerðum Ísraela? Jafnvel að heimta að þingið sendi ályktun og fordæmi þær árásir á saklausa borgara sem framin eru í Ísrael. Eru ekki þeir saklausu borgarar...
Jóhannes Eiríksson

9. Júní 2004

Við Ólaf nokkurn nefna má

Nú hefur forsætisráðherra skipað sína menn í nefnd sem á að semja frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu.
 
Ef frumvarpið um framkvæmd þá
telst falskt er líða stundir
við Ólaf nokkurn nefna má
að neit’ að skrifa undir.
 
Kristján Hreinsson, skáld

9. Júní 2004

Íslendingar hluti af hernámsliði í Afganistan

Utanríkisráðherra reynir nú að breyta almennum málskilningi Íslendinga með því að afneita því að íslenska liðsveitin í Afganistan sé hluti af hernámsliði þessa ósjálfráða landsvæðis í Asíu.Hann talar í þessu sambandi um Ísland,sem herlaust,hlutlaust land.þegar málið snýr að beinni þáttöku íslenskrar liðsveitar,sem skráð er til beinnar þáttöku í hernaðaraðgerðum NATO í Afganistan. Með...
Baldur
 

9. Júní 2004

Til hamingju Ólafur forseti!

Ef marka má skoðanakönnun Baugstíðinda í dag hlýtur að vera hátíð í bæ á Bessastöðum. Samkvæmt könnuninni nýtur sitjandi forseti hvorki meira né minna en 66,3% fylgis meðal þjóðarinnar en mótframbjóðendur hans, sem alls endis óþarft er að kynna, eiga svo sannarlega á brattann að sækja. Til marks um firnasterka stöðu Herra Ólafs má t.a.m. geta þess að Vigdís Finnbogadóttir hlaut aðeins...
Runólfur Áki

9. Júní 2004

Þetta er frábært Ólafur!

Í framhaldi af þessari litlu leiðréttingu tek ég undir hamingjuóskir Runólfs til Herra Ólafs sem hefur aldeilis staðið sig í stykkinu í boltanum með Baugsurum, að ekki sé nú talað um meistarataktana á skíðunum með fræga fólkinu í Aspen eins og berlega má sjá á veraldarvefnum, nánar tilekið á aspensnowmass.com. Mér er orða vant að lýsa...
Þórólfur Þórðarson

9. Júní 2004

Harmur Umhverfisstofnunar

Birtist í Morgunblaðinu 08.06.04.
Í lokin vil ég beina þeim tilmælum til umhverfisráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur, að hún skýri afstöðu sína til þessa máls. Það er nefnilega svo, að umhverfisráðherra ber ábyrgð á þessari tilraun til skoðanakúgunar. Þessu máli er ekki lokið, það eitt er víst...

8. Júní 2004

Bljúg bænarorð

Þessi bljúgu bænarorð urðu til nú í morgunsárið:
 
Við biðjum Guð um betri hlíf
og betri stjórnarherra
enda verður okkar líf
ekki mikið verra.
 
Kristján Hreinsson, skáld

8. Júní 2004

Um landvarðamálið og fleiri af svipuðum toga

Sæll Ögmundur
Ég las grein þína um landverðina áðan í Morgunblaðinu. Bendi þér á þetta frá 27/8 ´00 : <http://www.eldhorn.is/hjorleifur/naust/NAfr2k.htm> og það sem Ómar sagði í viðtali við DV 13/12 ´03 um gerð myndar sinnar (Á meðan land byggist) : Vertu þægur,Ómar. Ómar hefur reynt að fá styrki til gerðar myndarinnar en jafnan fengið þau svör að menn vilji ekki tengjast því máli. "Margur hefði sagt að ég hefði átt að reyna meira að fá ...
Pétur

8. Júní 2004

Hvað meinar forsætisráðherra?

Ágæti Ögmundur
Í Kastljósi sagði forsætisráðherrann eftirfarandi: Hér eru bæði blöðin og ljósvakamiðlarnir á einni hendi, og þetta þekkist hvergi. Hvaða hendi er það ?
Ég sé ekki betur en mikilvægustu fjölmiðlarnir á Íslandi séu í stafrófsröð
Fréttablaðið, Morgunblaðið, Ríkissjónvarpið, Ríkisútvarpið og Stöð 2. Ég get ekki séð að þeir séu á...
Sigmundur Guðmundsson

8. Júní 2004

Kröftugur fundur gegn hernaðarofbeli Ísraela


Á laugardag var haldinn útifundur til þess að mótmæla hernaðarofbeldi Ísraela gegn Palestínumönnum. Það var félagið Ísland-Palestína sem stóð fyrir fundinum og stýrði formaður félagsins, Sveinn Rúnar Hauksson, fundinum. Ræðumenn voru Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar. Á fundinum var samþykkt ályktun ( sjá nánar) og Sigurður Skúlason, leikari las ljóð, þar á meðal meðfylgjandi ljóð eftir Kristján Hreinsson, skáld:

8. Júní 2004

Verða mannréttindi brotin í þjóðaratkvæðagreiðslunni?

Nú eru okkar ástkæru stjórnvöld í óða önn að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðsluna um fjölmiðlalögin. Ég vil aðeins minna á nauðsyn þess að koma upp sérstökum kjördeildum í fjölmennustu kirkjugörðum landsins. Það geri ég með sérstöku tilliti til óvenjufjörugrar þátttöku í hinni annáluðu undirskriftasöfnun þar sem skorað var á forseta landsins að synja lögunum staðfestingar. Látnir einstaklingar munu hafa komið þar talsvert við sögu og nýtt sér tölvutæknina rétt eins og við hin sem ...
Jón Bisness

7. Júní 2004

Saga Reagans endurskrifuð?

Forseti Íslands hefur sent samúðarskeyti vestur um haf vegna fráfalls Ronalds Reagans forseta Bandaríkjanna 1980-88. Hann lést í fyrradag á tíræðisaldri. Í Morgunblaðinu í dag er leitað eftir ummælum forsætisráðherra,utanríkisráðherra, fyrrverandi ...

6. Júní 2004

Af hverju gleyma menn?

Eigum við að trúa því að Halldór Ásgrímsson muni ekki eftir þessari grein mannsins sem var formaður þingflokks framsóknarmanna þegar utanríkisráðherra datt sjálfur inn á þing fyrir þrjátíu árum. Mannsins sem studdi Halldór þegar hann steig fyrstu skrefin á Alþingi? Eigum við að trúa því að hann muni ekki eftir röksemdum Stefáns Valgeirssonar í bráðabirgðalagamálinu á sínum tíma? Eigum við að trúa því að sá maður sem Framsóknarflokkurinn kaus til að halda fram arfleifð þeirra Jónasar, Hermanns, Eysteins, Ólafs, og  Steingríms þekki ekki þann þráð í sögu flokksins sem Þórarinn Þórarinsson spinnur í greininni sem hér er ...
Ólína

6. Júní 2004

Sögulaus formaður?

Yfirlýsingar Halldórs Ásgrímssonar formanns Framsóknarflokksins um málsskotsréttinn hafa vakið furðu. Í grein sem Ólína sendir síðunni í dag og ætti að vera öllum sem áhuga hafa á pólitík og þjóðmálum, skyldulesefni eru málin reifuð í sögulegu samhengi. Þar segir m.a.: "Þú rifjar upp Ögmundur áskorun tugþúsunda Íslendinga sem báðu Vigdísi Finnbogadóttur að synja EES lögunum staðfestingar. Það er líka rétt að rifja upp fyrir lesendum ogmundur.is, fyrir Halldóri Ásgrímssyni og sérstaklega fyrir þeim sem búa til rökstuðning fyrir hann í þessu máli og öðrum að vissan um málskotsrétt forseta lýðveldisins er snar þáttur í pólitískri hefð Framsóknarflokksins. Þekktur er rökstuðningur ...

5. Júní 2004

Myndir og merkingar

Áfram heldur umræðan og Davíð og Dóri hafa báðir tengt Ólaf Ragnar við Baugsveldið.

Davíð og Dóri þeir góla:
,,Á djöfla hjá Bónus má stóla,
þar illskan er mest,
og auðvitað sést
í merkinu myndin af Óla."

Kristján Hreinsson, skáld

5. Júní 2004

Hvað þýðir "enginn" Halldór?

Hitt finnst mér alvarlegra, hvernig Halldór Ásgrímsson leyfir sér að tala til þjóðarinnar. Það má fyrirgefa honum mannlegan breyskleikann en ekki valdhrokann og einræðistilburðina sem komu fram í yfirlýsingum hans. Helsta viðfangsefni þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar virðist nú vera að ...

4. Júní 2004

Á 45 snúninga hraða...

Svo gjörsamlega hefur Morgunblaðið tapað áttum í skrifum sínum að því verður helst líkt við texta mannsins sem skrifaði lokaritgerðina í lagadeildinni á Corolla ritvél með boxhönskum. Þyrftu nú ekki ritstjórar Morgunblaðsins og hinn betur gerði hluti eigendahópsins að velta fyrir sér hvort eitthvað samband kynni að vera milli þess flokkspólitíska kúrs sem Morgunblaðið tók fyrir þremur árum og velgengni Fréttablaðsins á blaðamarkaðnum? Hvort flokkspólitískur kúrs Morgunblaðsins kynni e.t.v. að eiga...
Ólína

4. Júní 2004

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: Nú er nóg komið

Við þurfum að tala hárri og skýrri röddu gegn ofbeldinu og nota hvert einasta tækifæri sem gefst til að sýna Palestínumönnum samstöðu. Slíkt tækifæri gefst nú um helgina. Félagið Ísland-Palestína efnir til útifundar á Ingólfstorgi laugardaginn 5. júní kl 14 og er fundurinn haldinn til að mótmæla stríðsglæpum Ísraelshers í Rafah á Gazaströnd. Þann 5. júní eru 37 ár liðin frá því að hernám Gaza og Vesturbakkans, að meðtalinni A-Jerúsalem, hófst með Sex daga stríðinu 1967, en þá...

4. Júní 2004

Skert sjálfsmat og "valinkunnir lögfræðingar"

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, lét svo lítið að koma í Kastljós Ríkissjónvarpsins í gærkvöld – einn. Að sjálfsögðu, annað hefði verið stílbrot. Umræðuefnið var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla. Ekki þorir Sjálfstæðisflokkurinn lengur að standa gegn því að hún fari fram. Merkilegt hve stjórnarmeirihlutinn er banginn við þá þjóð sem kaus hann til valda. Það er engu líkara en ráðamenn verði skelfingu lostnir ef þjóðin á að fá að segja sína meiningu, beint og milliliðalaust. Nú er þetta ...

3. Júní 2004

Ætlar stjórnarmeirihlutinn að reyna að fótumtroða stjórnarskrárvarin mannréttindi?

Menn kann að greina á um þetta frumvarp, en eitt er víst að viðbrögð talsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknar segja okkur að bráðnauðsynlegt var að láta á það reyna hvort stjórnarmeirihlutinn sé virkilega orðinn svo firrtur í valdblindu að hann sé reiðubúinn að fótumtroða stjórnarskrárvarin mannréttindi...

3. Júní 2004

Nú fyrst verð ég orðlaus!

Nú er þetta ekki lengur spurning um hægri og vinstri heldur um það hvort menn vilja lýðræði eða forræðishyggju, sem hér áður fyrr var kölluð fasismi. Um þetta kemur þjóðaratkvæðagreiðslan til með að fjalla. Yfirlýsingar Davíðs Oddssonar í Kastljósi í kvöld eru dapurlegar fyrir alla þá sem vilja þeim manni vel.
Sunna Sara

3. Júní 2004

Meira um þá sem ekki skrifa undir

Orðaskak um fólkið flest
fær hér vart að lifa
þegar okkur þjóna best
þeir sem ekki skrifa.
 
Kristján Hreinsson, skáld

3. Júní 2004

Davíð fellur á lýðræðisprófi

Forsætisráðherra þjóðarinnar kom fram í Kastljósi í köld. Hann tifaði á því að forsetinn væri að fara fram gegn þinginu. Ekki hvarflaði að honum að forsetinn væri að fara fram með þjóðinni. Ólafur Ragnar er aukaatriði í þessu máli. Lykilhlutverki gegnir þjóðin og lýðræðið. Gegn hvoru tveggja, lýðræðinu og þjóðinni gengur forsætisráðherrann. Hvílík lágkúra. En nú eru þeir búnir að ræða saman Davíð og Halldór. Þeir eru sammála segir ...
Hafsteinn Orrason  

3. Júní 2004

Hvað á að hafa forgang í fæðingarorlofssjóði?

Birtist á vg.is/postur 02.06.04
Sem áður segir eru rökin fyrir því að setja ekki þak á fæðingarorlofsgreiðslur góðra gjalda verð – en að mínu mati eru aðrir þættir í fæðingarorlofslöggjöfinni miklu framar í forgangsröðinni um úrbætur...

2. Júní 2004

Íslendingar beiti sér gegn mannréttindabrotum Bandaríkjamanna í Guantanamo


Frá fréttamannafundi þar sem áskorunin var kynnt. Á myndinni eru Bjarni Magnússon frá Deiglunni, Huginn Þorsteinsson frá Múrnum, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir formaður Íslandsdeildar Amnesty International. Mynd Bára.

BSRB, ASÍ, Íslandsdeild Amnesty International og mörg ungliðasamtök stjórnmálaflokkanna hafa sent sameiginlega áskorun til ríkisstjórnar Íslands þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að koma mótmælum á framfæri með formlegum hætti við ríkisstjórn Bandaríkjanna vegna þeirra mannréttindabrota sem nú viðgangast í herstöðinni við Guantanamo flóa á Kúbu. Þá hafa þessir aðilar ráðist í sameiginlega undirskriftasöfnun á vefslóðinni: www.skodun.is/undirskrift
Í áskoruninni segir:..

2. Júní 2004

Sá sem skrifar ekki undir

Sæll Ögmundur
Í tilefni atburða dagsins varð þessi til:
 
Þörf og góð um þessar mundir
þykir staðreynd sú
að sá sem skrifar ekki undir
er okkar hetja nú.
 
Kveðja,
Kristján Hreinsson

2. Júní 2004

Múrinn rofinn...en hvað svo?

Ég endurtek áskorun mína um að menn taki málefnalega á þessu máli og láti ekki berast hugsunarlaust með straumnum.
Nú verða vinstri menn að svara, er ef til vill best að styðja frumvarpið eða viljum við ekkert frumvarp? Svarið þykir mér ...
Rúnar Sveinbjörnsson

1. Júní 2004

Busharon


Ísraelski baráttumaðurinn fyrir mannréttindum, Uri Avnery, segir í blaðagrein sem birtist í Morgunblaðinu, laugardaginn 29. maí, að "sú undarlega skepna Busharon" sé í kreppu. Það eigi bæði við um framenda skepnunnar, George W. Bush, Bandaríkjaforseta og afturendann, Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels. Myndbirtingarnar úr íröskum fangelsum af nöktum föngum hafi opinberað nekt Bandaríkjaforseta. Kreppa Ísraela felist í því að ofbeldið sem þau beiti Palestínumenn færi þeim ekki árangur.

31. Maí 2004

Delapsus resurgam

En hvernig eigum við að skilja viðbrögð hans síðustu vikurnar? Steinn sagði eitthvað á þá leið að í draumunum fælist fall okkar og veikleikar, en það eru engir draumar tengdir því að láta frá sér forsætisráðherrastól – miklu fremur martraðir. Bíddu hægur. Getur verið að viðbrögðin megi rekja til atburða haustsins, eða hræðslunnar við styrk forseta lýðveldisins? Eða er svarsins kannski líka að leita í...
Ólína

31. Maí 2004

Framsókn í svefnrofunum?

Ég er ekki alveg frá því að Framsókn sé að vakna – alla vega gæti hún verið í svefnrofunum. Það er löngu tímabært að Framsóknarflokkurinn fari að rumska. Mér sýnist margt benda til að hann þurfi að fara að hefja sig upp á flettiskiltin aftur...

31. Maí 2004

Enn um þrýstiaðgerðir í þágu mannréttinda

Hér á síðunni hefur verið fjallað allítarlega um hvaða leiðir menn telji vænlegastar til að stöðva hernaðarofbeldið sem Ísraelar beita Palestínumenn. Inn í þessa umræðu á heima áskorun, sem  Grasrótarsamtökin GIPP (Grassroots International Protection For The Palestinian People), hafa sent frá sér....

30. Maí 2004

Ruslfæðisauglýsingar bannaðar í Bretlandi – prófmál í uppsiglingu?

Það er ágætt framtak hjá bresku stjórninni að vilja stemma stigu við matarvenjum sem eru þjóðinni sannanlega mjög skaðlegar. Þetta gæti hins vegar orðið skemmtilegt pólitískt prófmál. Bretar eiga að vísu ekki stjórnarskrá en einhvers staðar hefði verið sagt að íhlutun af þessu tagi í markaðinn bryti í bág við stjórnarskrá, eignarréttinn, jafnræði á markaði, meðalhóf og öll þessi hugtök sem ...

28. Maí 2004

Áminningarfrumvarpið dautt – alla vega í bili!

Undir lok þinghaldsins náðist samkomulag um að taka áminningarfrumvarp Geirs H. Haardes, fjármálaráðherra af dagskrá þingsins og er því ekki lengur hætta á, að þetta umdeilda frumvarp verði að lögum – alla vega ekki á þessu þingi. Þetta hlýtur að teljast mjög mikilvægur árangur. Ekki leikur nokkur vafi á því, að hefði frumvarpið orðið að lögum nú, hefði það ...

28. Maí 2004

Drífa Snædal skrifar: Skólagjöld eða góð menntun

Vandræðagangur Háskóla Íslands virðist ætla að ná nýjum hæðum í umræðunni um skólagjöld. Sífellt fáum við nýjar ekki-fréttir um að ekki eigi að taka afstöðu að svo komnu máli til þess hvort setja eigi skólagjöld á nám við stofnunina. Þvælingurinn innan HÍ er vatn á myllu þeirra sem vilja markaðsvæða allt nám þar með talinn Menntamálaráðherra. Málflutningurinn er á þá leið að ...

28. Maí 2004

Bankarnir og Íbúðalánasjóður

Sæll Ögmundur.
 Ég vil byrja á því að þakka þér og flokksfélögum fyrir frábært starf í þágu almennings hér á landi. Vangaveltur mínar snúast um viðskiptabankana okkar sem voru seldir svo sorglega hér fyrir nokrum misserum. Nú hafa vinnubrögð þeirra og fégræðgi endanlega gengið fram af mér þegar þeir eru að kvarta undan starfsemi Íbúðalánasjóðs, sem er einn af hornsteinum þess velferðaríkis sem Ísland á að vera. Hvað finnst þér um að ríkið setji á stofn viðskiptabanka og geti þá um leið ...
Halldór

28. Maí 2004

Dabbi og Dóri

-Heyrðu snöggvast Halldór minn
hlýðni, tryggi drengur
fæ ég kannski flokkinn þinn
að fleka aðeins lengur.

Lof mér nú að leika að
landsins bændaklíku
ég skal bráðum bæta það
með blíðu hinna ríku.

-Jæja þá í þetta sinn
þú mátt nota fólin
en hvernig verð ég hvítþveginn
og hvenær fæ ég stólinn?

Kristján Hreinsson, skáld

28. Maí 2004

RÚV komið undir saxið?

Ég minnist þess að við umræðuna um fjölmiðlafrumvarpið vildir þú fyrst fá botn í umræðuna um framtíð RÚV. Nú hefur komið á daginn að þetta reyndist skynsamleg afstaða. Sendimenn frá ESA eru mættir á staðinn, einsog skýrt var frá í fjölmiðlum í gær, til að skilgreina hvort leyfilegt sé að reka stofnunina í núverandi mynd! Geir H. Haarde, fjármálaráðherra hafði áður sagt við Eldhúsdagsumræðuna eitthvað í sama dúr og bætti því við, ef ég tók rétt eftir, að draga þyrfti saman seglin hjá stofnuninni og nú botnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, þetta með því ...
Sunna Sara

28. Maí 2004

Umræðan á fullu um þrýstiaðgerðir gegn Ísrael

Fyrir nokkrum dögum beindi ég spurningu til Félagsins Ísland Palestína á hvern hátt félagið teldi að Íslendingar gætu helst beitt sér gegn mannréttindabrotum og hernaðarofbeldi Ísraela á hendur Palestínumönnum. Finnst félaginu koma til greina að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael og hvað með viðskiptaþvinganir (sjá nánar)? Hér verður sagt frá athyglisverðum vangaveltum um þetta efni innan ísraelsku mannréttindasamtakanna, Gush Shalom, einnig af hálfu Elíasar Davíðssonar, o.fl.... 

27. Maí 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Hannesk vísindi

Nú er kominn upp nýr flötur á þessu máli, sem gerir það enn meira spennandi, með því að Davíð Oddsson segir að það muni koma í hans hlut að ,,úrskurða” um hvort forsetinn hafi heimild til að synja lögunum staðfestingar. Forsætisráðherran telur falla í sinn hlut að ,,úrskurða” í máli sem varðar löggjafarvaldið en það er í höndum þings og forseta, samkvæmt stjórnarskránni. Enda þótt Davíð Oddson langi í ...

27. Maí 2004

Kristján Hreinsson, skáld skrifar: Guðsvolaða þjóð

 Nú hafa íslenskir ofsatrúarmenn í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sagt að við megum aldrei styggja vini okkar í Ísrael. Davíðsmenn hafa löngum hvatt okkur hin til að sýna stuðning Guðs útvöldu þjóð, þeirri útvöldu þjóð sem reisir múra um eigið ágæti og valtar yfir allt og alla, myrðir og eyðir í nafni Guðs. Stuðninginn eigum við væntanlega að sýna, vegna þess að allir glæpir ...

27. Maí 2004

Landavarðamál áminning um áminningarfrumvarp

Ég hef fylgst með "landvarðamálinu" og er gáttuð á framkomunni í garð landvarðanna sem flögguðu í hálfa stöng á hálendinu í fyrra og fengu ákúrur fyrir. Þetta mál gerir mig ennþá ákveðnari í andstöðu við "áminningarfrumvarp" ríkisstjórnarinnar. Mér sýnist af því sem haft er eftir þér í fréttum að svo kunni að fara að frumvarpið fái ekki afgreiðslu. Ég teldi það mikinn sigur ef þær yrðu málalyktir. Er ríkisstjórnin að sjá að sér? Ég vil taka það fram að ég er ekki ríkisstarfsmaður. Ég er hins vegar ...
Halldóra

27. Maí 2004

Markaðslögregla gegn íslensku lýðræði

Það er sjálfsagt að taka þessum gestum vel einsog öllum þeim sem sækja land okkar heim, sýna þeim Gullfoss og Geysi og þess vegna Bláa Lónið. Það þarf hins vegar að segja þeim kurteislega en ákveðið, að sjálfir ætli Íslendinggar að ákveða hvernig þeir reki sitt Ríkisútvarp og aðrar almannastofnanir í þessu landi. Rannóknarvinna þeirra á þessu sviði sé afþökkuð. Það er ekki þessara gestkomandi manna að “skera úr” um hvað er rétt og hvað rangt í starfsemi íslenska Ríkisútvarpsins og hvernig sú stofnun er fjármögnuð. EES - smningarnir sem við höfum undirgengist eru að sönnu takmarkandi á ýmsum sviðum. En við skulum ekki gleyma því, að ...

27. Maí 2004

Í eldhúsi

Sæll Ögmundur.
Ef marka má Fréttablaðið þá fóru eldhúsdagsumræður fram á þennan hátt:

Stjórnin flækti málin mest,
mjög varð Halldór fyrir tjóni,
Steingrímur þar stóð sig best
en steypan rann úr Sigurjóni.
Með vinarkveðju,

Kristján Hreinsson, skáld

27. Maí 2004

Sjálfsvörn Ísraela?

Síðan komu fleiri Framsóknarmenn í ræðustól og töluðu um víxlverkun ofbeldis og að deiluaðilar þyrftu að semja. Þarna er verið að leggja að jöfnu einn tæknivæddasta árásarher í heimi og nánast óvopnaða alþýðu. Voru deiluaðilar í Þýskalandi á sínum tíma ef til vill, nasistar og gyðingar? ...
Hafsteinn Orrason

25. Maí 2004

Um undirskrift forseta


Í gær var ekkert gott að frétta,
gegnum Þingið frumvarp rann.
Ef Óli skrifar undir þetta
aldrei mun ég kjósa hann.

Kristján Hreinsson, skáld

25. Maí 2004

Skoðanakúgun umhverfisyfirvalda

Ég ákvað af þessu tilefni að kanna gögn í málinu og sýna þau að mínu mati fram á að umhverfisyfirvöld hafa gerst sek um tilraun til mjög grófrar skoðanakúgunar. Árni Bragason, forstöðumaður Náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar lýsir furðu yfir því í viðtali við Morgunblaðið í dag, að ég "slái fram" fullyrðingum í þessu máli án þess að hafa kynnt mér það. Ég get upplýst Árna Bragason um að ég hef kynnt mér þetta mál vel og lengi fylgst með framvindu þess einsog hann reyndar veit sjálfur!...

25. Maí 2004

Valgerður í hundrað ár?

Eldhúsdagsumræðurnar í gærkvöld voru með fjörugra móti og lét VG ekki sitt eftir liggja fremur en fyrri daginn. Hins vegar voru stjórnarþingmenn, sérstaklega Framsóknarmenn sem álfar út úr hól. Það vakti athygli mína að Valgerður Sverrisdóttir sagði að þér hefði orðið á í messunni að tala um áframhaldandi uppbyggingarstarf. Er manneskjan virkilega þeirrar skoðunar að allt sem gert er í samfélaginu sé ríkisstjórninni að þakka? Þótt ríkisstjórn síðustu ára ...
Lilja

25. Maí 2004

Frábær dagskrá á Omega!

Ég vil þakka sjónvarpsstöðinni Omega og nýjum eigendum hennar fyrir yndislega dagskrá á laugardagskvöldið. Sérstaklega var ég uppnuminn af þættinum “Ég syng honum minn söng” með Árna Johnsen myndhöggvara og tónlistarmanni. Lag hans við sálm Jóns Bisness um foringjann var sérlega fallegt, já undurblítt. Og flutningur Árna var hreint út sagt stórkostlegur. Finnst mér vel koma til álita ...
Ingólfur  

25. Maí 2004

Víkkum sjóndeildarhringinn út fyrir þingið

Ég vil þakka þér Ögmundur fyrir ræðuna á þingi í gær. Loksins kom fram skilningur á því að pólitík verður ekki bara til á Alþingi. Reyndar finnst mér það nánast aukaatriði hvað gerist þar. Þú hvattir til vakningar í þjóðfélaginu og gagnsóknar í stað varnarbaráttu, funda á vinnustöðum til að hnekkja stjórnarstefnunni. Oft hafa mér fundist þingmenn alltof sjálfhverfir og þörf á að víkka sjóndeildarhringinn. Baráttufána á loft.Við eigum samleið!
Launamaður

24. Maí 2004

Rúnar Sveinbjörnsson skrifar: Hver vill kaupa lyf af VÍS?

Það væri áhugavert rannsóknarefni að grennslast fyrir um hvað varð um Sambandið, sem var stolt framsóknarmanna. Ekki fór það á hausinn svo ég viti heldur voru allt í einu upp sprottin allnokkur stór fyrirtæki sem öllum er stjórnað af gömlum Sambands- og framsóknarmönnum. Nægir þar að nefna risana VÍS, Samskip og  Esso.
Eins og margir muna þá hrökklaðist Finnur Ingólfsson, fyrrverandi vonarstjarna framsóknarmanna, úr...

24. Maí 2004

Svar félagsins Ísland Palestína: Nei, nú er komið nóg


19. maí gerði ísraelski herinn eldflaugaárás á friðsama mótmælagöngu í Rafah.  Hér má sjá mann á Al-Najjar sjúkrahúsinu, syrgja ættingja sem féllu í árasinni .


Nú hefur svar borist við fyrirspurn minni hér á síðunni nýlega, til félagsins Ísland Palestína, um hvort Íslendingar eigi að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael vegna þeirra alvarlegu mannrétindabrota, sem nú eru framin á ábyrgð ísraelskra yfirvalda. Svar félagsins hvet ég alla lesendur síðunnar til að kynna sérgaumgæfilega. Okkur ber siðferðileg skylda til að íhuga alvarlega hvernig við getum lagt okkar af mörkum í þágu mannréttinda. Svar félagsins er umhugsunarvert og vekjandi:..

23. Maí 2004

Sviptingar á Omega – nýjar áherslur strax í kvöld!!!

Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur keypt meirihluta í sjónvarpsstöðinni Omega. Nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til stöðvarinnar. Uppsagnir eldri starfsmanna standa ekki til, að sögn Hannesar, enda er þar á ferð vant fólk sem kann til verka. En áhrifa umskiptanna sér stað í dagskrá stöðvarinnar strax í kvöld: Dagskrárbreytingin verður á þessa lund:...

23. Maí 2004

Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael

Ég er nú ekki með spurningu til þín. Ég vildi aðeins taka undir þá hugmynd þína að slíta stjórnamálasambandinu við Ísraelsmenn. Það er í raun furðulegt að slíkt hafi ekki verið gert fyrir löngu. Þakka þér samt fyrir að vekja máls á því. kær kveðja,
Ólafur

23. Maí 2004

Ungfrú Hornafjörður

Reykjavíkurfélag VG efndi til umræðufundar í gær um stjórnmál líðandi stundar og framtíðarspekúlasjónir. Framsögumenn voru Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands. Báðum tókst prýðilega upp fyrir sinn hatt. Hann var hins vegar ekki sömu gerðar eins og vænta mátti.
Hannes dvaldi við ýmsa þætti í ...

21. Maí 2004

Ríkisstjórnin fær rauða spjaldið!

 
Mynd Stefán Karlsson Fréttablaðinu

Á fjölmennum útifundi á Austurvelli sl. miðvikudag var ríkisstjórn Íslands sýnt rauða spjaldið. Í knattspyrnunni þýðir þetta brottvísun af velli. Nýjustu tilefnin eru að sjálfsögðu Fjölmiðlafrumvarpið og frumvarp um réttindaskerðingu hjá starfsmönnum ríkisins, en sem kunnugt er stendur til að auðvelda forstöðumönnum stofnana ríkisins að reka fólk skýringarlaust! Þetta á að gera þvert á vilja allra heildarsamtaka launafólks. Fundurinn á Austurvelli beindist gegn ólýðræðislegum vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar en til stuðnings lýðræðinu.

21. Maí 2004

Hvers vegna við ekki getum samþykkt Fjölmiðlafrumvarpið

Fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar er vanreifað. Það krefst miklu meiri og dýpri umræðu og framar öllu þarf að ræða framtíðarskipan fjölmiðla heildstætt, m.a. með tilliti til þeirrar framtíðar sem menn ætla Ríkisútvarpinu, áður en ákvarðanir eru teknar um frekari skref. Andstaða mín við þetta frumvarp byggir á þessu. Hún byggir einnig á því að ég tel að hætta sé á því að frumvarpið sé alls ekki til þess fallið að  ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Þvert á móti tel ég hættu á hinu gagnstæða: Frumvarpið, ef af lögum verður,  muni veikja þá fjölmiðla sem nú eru starfandi og draga þannig úr fjölbreytni.

21. Maí 2004

Drífa Snædal skrifar: Sigur skynseminnar í augsýn

Það voru gleðitíðindi fyrir kvenfrelsissinna þegar Vændisfrumvarpið svokallaða var afgreitt til annarrar  umræðu á Alþingi í vikunni. Reyndar voru stórtíðindi þar á ferð þar sem barátta framsýns fólks virðist loks skila árangri inni á þingi. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að hver sem láti af hendi eða lofar að láta af hendi greiðslu eða annan ávinning fyrir vændi skal sæta sektum eða fanglesi allt að einu ári.

20. Maí 2004

Fyrirspurn til Félagsins Ísland – Palestína

Ríkisstjórnir víða um heim mótmæla en oftar en ekki á svo lágum nótum að nær væri að tala um að þær maldi í móinn. Félagið Ísland Palestína hefur staðið vaktina í mannréttindabaráttu Palestínumanna um langt árabil. Það hefur félagið gert af yfirvegun og viti. Fyrir vikið bera allir virðingu fyrir félaginu. Nú beini ég spurningu til félagsins og þætti vænt um að fá svar. Hvað er  nú til ráða annað en mótmæla hástöfum? Hvað geta Íslendingar gert? Sjálfur er ég farinn að hallast að því að rétt sé að...

20. Maí 2004

Græddur er geymdur eyrir, kakóið og kökurnar eru tilbúnar

Í framhaldi af umfjöllun Moggans 14. maí, um fátækt í Reykjavík, fórum við nokkrir félagar í vinnuflokkadeild OR að ræða um fátækt, við rifjuðum upp lýsisgjafirnar og hvernig við sem gengum um í bættum fötum urðum fyrir hæðnisglósum. Einn sagði frá móður sem bjó í bragga með syni sínum. Hún kom iðulega fram í dyr braggans og kallaði á soninn og sagði hárri röddu svo allir heyrðu, að ...
Rúnar

20. Maí 2004

Um fjármál flokkanna, forsetann, auðhringana og lýðræðið

Hvorki erum við blóðskyldir, ef marka má Íslendingabók Kára Stefánssonar, ég og forsætisráðherra né heldur liggja á milli okkar leyndir fjárhagslegir þræðir. En eitt áhugamál a.m.k. eigum við sameiginlegt, nefnilega Borgarnesræðuna og peningamál Samfylkingarinnar. Þegar forsætisráðherra druslaðist loksins upp í ræðustól s.l. laugardag til að tjá sig um fjölmiðlafrumvarpið sagði hann m.a...
Þjóðólfur

19. Maí 2004

Verður tyggigúmmíkenningin sannspá?

Þögn flestra þingmanna Framsóknarflokksins í ,,fjölmiðlafrumvarpinu", frumvarpi sem þeir vilja að keyrt sé í gegn um þingið, er æpandi. Það virðist varla nokkur þingmaður fyrir utan Kristin H. Gunnarsson tala opinberlega um málið. Í fjölmiðlum má hins vegar oft lesa fréttir þar sem ónafngreindur þingmaður úr liði Framsóknarmanna lætur ...
Huginn

19. Maí 2004

Sértækt frumvarp – sértæk andstaða

Nú hafa þingmenn Samfylkingarinnar hamrað á því að fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar sé sértækt og fram lagt til þess að koma rothöggi á Norðurljósasamsteypuna. En hvað með andstöðu þeirra gegn frumvarpinu? Er hún ekki með sama hætti sértæk? Þingmenn Samfylkingarinnar vilja engar hömlur ...
Ingólfur

19. Maí 2004

Ónýt/Ónýtt starfsorka


Í dag var haldin mjög vekjandi ráðstefna um atvinnuleysi miðaldra fólks - 45 ára og eldri. Áhugahópur sem hefur verið stofnaður um málefnið blés til ráðstefnunnar í samvinnu við Vinnumálastofnun og ýmis verkalýðsfélög, þar á meðal BSRB. Þetta er lofsvert framtak og enginn vafi á að framhald á efir að verða á þeirri umræðu...

19. Maí 2004

Verkfærakista Geirs H. Haarde

Birtist í Morgunblaðinu 18.05.04.
Fjármálaráðherra landsins, Geir H. Haarde, leggur nú mikið kapp á að ná fram því áhugamáli ríkisstjórnarinnar að forstöðumenn ríkisstofnana geti rekið fólk úr starfi fyrirhafnarlaust. Hugmyndafræðin að baki þessu áhugamáli sem ...

18. Maí 2004

Hvað með Framsóknarniðurskurðinn hjá okkur Alfreð?

Ég var að hlusta á kvöldfréttir. Alfreð Þorsteinsson á fullu að mótmæla frumvarpi Davíðs um fjölmiðla enda atvinna mörg hundruð manns í húfi. Allt satt og rétt. Hann segir Framsókn klofna í málinu. En hvers vegna hef ég aldrei heyrt í Alfreð út af niðurskurði á Landspítalanum? Það er líka vinnustaður í Reykjavík. Hefur R-listinn engar áhyggjur af öllu því fólki ...
Starfsmaður á Landspítala Háskólasjúkrahúsi

17. Maí 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Til vinstri við vinstri?

...Ég hafði að sjálfsögðu oft samband við Ólaf Ragnar, eins og mér bar, tók m.a. sjálfur við hann viðtöl sem fjármálaráðherra. Morgun einn brá svo við að formaðurinn vaknaði upp með kenningu um blaðið og sjálfan sig í kollinum. Hann setti sig í samband við ritsjóra flokksblaðsins og las honum rækilega pistilinn fyrir meðhöndlun blaðsins á einhverju deilumáli sem þá var uppi í flokknum – í þeim efnum tók yfirleitt eitt við af öðru. Flokkurinn hafði að mig minnir haldið einn af sínum mörgu fundum. Á honum kom í ljós ágreiningur milli formanns flokksins, Ólafs Ragnars Grímssonar og formanns miðstjórnar, Steingríms J. Sigfússonar (kannski var hann bara varaformaður AB). Á forsíðu Þjóðviljans var tekið svo til orða að...

17. Maí 2004

Stuðningsmönnum Framsóknar vottuð samúð

Á undanförnum dögum hafa margir orðið til að gera því skóna að upp úr stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks kynni að slitna vegna ágreinings um Fjölmiðlafrumvarpið. Þeir sem þannig hugsuðu gleymdu tveimur lykilatriðum: Í fyrsta lagi hve ákaft Halldór Ásgrímsson, formann Framsóknarflokksins langar til að setjast í stól forsætisráðherra og í öðru lagi hve undirgefnir og leiðitamir þingmenn Framsóknarflokksins eru þegar til kastanna kemur. Eftir að Davíð Oddsson, var búinn að fá Halldór til að...

16. Maí 2004

Þreyta á glamúr og kóngadekri

Hjartanlega er ég sammála þér í skrifum þínum hér á síðunni (14/5) um að vera kominn með uppí háls af öllu þessu yfirstéttar- og kóngadekri, sem mér sýnist heldur vera að færast að nýju í aukana. Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, finnst himinn og jörð vera að farast ef forseti Íslands fer ekki í brúðkaup sonar dönsku drottningarinnar og Halldór Ásgrímsson talar um ...
Sunna Sara

16. Maí 2004

Af alkunnu tilefni

Sæll Ögmundur,
þessi varð til af alkunnu tilefni :
Í afurð sinni einn og sér
enn má Davíð busla
og núna segja herrar hér
að hann sé einsog drusla.
Kristján Hreinsson, skáld    

14. Maí 2004

Kröftugur fundur gegn réttindaskerðingu


Það er ljóst
, að með þessu frumvarpi er stefnt til fortíðar, starfsmönnum á ríkisstofnunum send skýr skilaboð um það hverjir eru "húsbændur" og hverjir "hjú". Nái frumvarpið fram að ganga munu "húsbændur" geta rekið "hjúin" án fyrirhafnar. Annað atriði sem ljóst má heita, er að frumvarpinu er stefnt gegn tjáningarfrelsi. Einstaklingar eru sviptir rétti sínum til þess að skýra mál sit og bera hönd fyrir höfuð sér.

14. Maí 2004

Rumsfeld hlær að pyntingum

Það sem veldur því að ég skrifa þér þessar línur, Ögmundur, er viðtal eða öllu heldur hláturskast, Donalds Rumsfelds, "varnarmálaráðherra" Bandaríkjanna, sem sýnt var í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Rumsfeld var kominn til Íraks til að stappa stáli í pyntingameistarana. Gott ef  hann var ekki í fangelsinu þar sem upplýst hefur verið um hryllilegustu pyntingarnar. Og hvað fannst varnarmálaráðherra Bandaríkjanna um það sem fram hefur komið í fjölmiðlum um pyntingarnar? ...
Sunna Sara   

14. Maí 2004

Um vinnubrögð og traust til Fréttablaðsins

Sæll Ögmundur.
Gilda virkilega engar reglur um það á blöðunum hvernig farið er með innsendar greinar? Ég ætlaði varla að trúa því að Fréttablaðið skuli hafa, án samþykkis þíns breytt grein, sem þú sendir inn til birtingar í blaðinu. Ég las þetta á heimasíðu þinni og furðaði mig á því að þú gerðir ekki meira úr þessu en raun ber vitni. Hvað veldur að þú...
Guðleifur

14. Maí 2004

Ekki skylda gagnvart mér Halldór Ásgrímsson !

Haft var eftir Halldóri Ásgrímssyni, utanríkisráðherra og formanni Framsóknarflokkksins í morgunfréttum, að það væri skylda Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, gagnvart íslensku þjóðinni að sækja brúðkaup sonar Margrétar drottningar í Danmörku. Hvað veitir Halldóri Ásgrímssyni rétt til að tala á þennan hátt fyrir hönd íslensku þjóðarinnar? Ég segi fyrir mitt leyti að ...

14. Maí 2004

Um Lítilmagnann Baug og fjarveru ráðherra

Ég hef fylgst með umræðunni á Alþingi um fjölmiðlafrumvarpið. Ég er ekki viss um að ég sé alveg sammála ykkur í VG. Mér finnst sjálfsagt að brjóta niður þessar einokunarófreskjur á markaði. Mér finnst nánast hlægilegt að tala um Baug eins og einhvern lítilmagna, sem þurfi að meðhöndla sem slíkan. Það sem ég hins vegar ekki skil er að...
Valdimar

14. Maí 2004

Maðurinn fundinn.

Maðurinn sem lögreglan á Álftanesi lýsti eftir í morgun er kominn í leitirnar. Í ljós kom að hann hafði aldrei yfirgefið heimili sitt heldur var það náinn félagi hans sem reið frá Besssastöðum um miðnæturbil í gærkvöldi. Að sögn Geirs Grana Jóhannssonar, yfirlögregluþjóns á Álftanesi, flaug viðkomandi ...

14. Maí 2004

Lýst er eftir karlmanni.

Lögreglan á Álftanesi lýsir eftir 61 árs gömlum karlmanni, Ólafi Ragnar Grímssyni. Ólafur fór ríðandi frá heimili sínu um miðnæturbil á rauðblesóttum hesti áleiðis til Keflavíkurflugvallar þaðan sem hann ætlaði að fljúga til Kaupmannahafnar á áttunda tímanum í morgun. Við brottför gaf hann sig ekki fram og mun því hvorki hafa farið með vél Icelandair né Iceland Express en um önnur almenn flug til Danmerkur var ekki að ræða. Ólafur er 188 cm á hæð og samsvarar sé vel. Hann er með...

13. Maí 2004

Útvarp Reykjavík, klukkan er 7, nú verða sagðar fréttir:

Fréttirnar les Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Í fréttum er þetta helst: Rífandi gangur er á afgreiðslu fjölmiðlafrumvarpsins. Mikil ánægja er meðal stjórnarandstöðunnar með þá lýðræðislegu meðferð sem frumvarpið hefur fengið og er það mál manna að sjaldan hafi þinginu...

13. Maí 2004

Munum hann Bismarck

Otto von Bismarck var kallaður járnkanslarinn og var hann allsráðandi í Þýskalandi á síðustu áratugum 19. aldar. Rök má leiða að því að hann hafi komið andstæðingum sínum á kné með því að ganga að kröfum þeirra en á sínum eigin forsendum. Hann varð við kröfum ...

12. Maí 2004

Í tilefni forsetaframboðs Baldurs í Vara

Sæll.
Núna telur Baldur brýnt
til Bessastaða að fara
og Óla þykir eflaust fínt
að eiga hann til vara.
Kristján Hreinsson, skáld

12. Maí 2004

Um eftirlitsþjóðfélagið á 1. maí

Sæll Ögmundur.
Mig langar til að þakka þér hugleiðingar þínar í 1. maí ræðunni sem þú fluttir á Höfn í Hornafirði. Ég las eða heyrði einhverja fréttafrásögn af ræðunni þar sem fyrst og fremst var vitnað í skammir út í ríkisstjórnina. Kannski er þetta eðlilegt fréttamat. Fyrir minn smekk voru hugleiðingar þínar um eftirlitsþjóðfélagið og afleiðingar þeirra kerfisbreytinga sem nú eiga sér stað, miklu merkilegri. Mín tilfinning er sú að ...
Sverrir

12. Maí 2004

Guðmundur R. Jóhannsson skrifar: Markaðurinn er vandinn

Samþjöppun í fjölmiðlum er ekki af hinu góða, en hvað með samþjöppun í sjávarútvegi, samgöngum, flutningum, landbúnaði?  Nú gala allir um hagkvæmni stærðarinnar, en hún er ekki alltaf til góðs, yfirsýn skortir oft og sá drifkraftur sem mannleg samskipti eru, vill gleymast.
Fjölmiðlafrumvarpinu má stinga ofan í skúffu, það fjallar aðeins um lítið brot af miklu vandamáli.  Vandamál óhefts markaðar er það sem þarf að...

12. Maí 2004

Kannast menn við Berlusconi ástandið?

Munið eftir Berslusconi veldinu spurði Hjálmar og hvessti sig mjög. Samlíkingin átti væntanlega að vera við eigendur Baugs hér á Íslandi. En samlíkingin hlýtur að ganga lengra því Berlusconi er ekki aðeins auðjöfur heldur einnig forsætisráðherra Ítalíu. Á þinginu hefur hann beitt sér fyrir lagasetningu sem tryggir honum margvísleg sérréttindi í ítölsku samfélagi, þar með ítölskum fjölmiðlum þar sem ...

11. Maí 2004

Óviðeigandi, jafnvel ólöglegt !

Í sjónvarpsfréttum lýsti stjórnandi fangelsismála hernámsliðsins í Írak því yfir, að pyntingar á föngum hefðu verið „óviðeigandi, jafnvel ólöglegar“
( improper, even illegal)! Er það virkilega svo, að stjórnendum fangelsismála hafi þótt þetta óviðeigandi og hugsanlega ekki í samræmi við lög? Í fréttinni með þessum yfirlýsingum herforingjans voru sýndar myndir af nöktum mannslíkömum, bundnum saman í stóra kös; aðrir fangar voru reyrðir fastir, með bundið fyrir augun eða með kvenmannsnærbuxur yfir höfðinu. Allt gert til að valda sem mestri þjáningu og niðurlægingu. Frásagnir af nauðgunum og misþyrmingum fylgdu.

11. Maí 2004

Kúgarar afhjúpaðir

Pistillinn birtist í Morgunpósti VG (vg.is/postur) 10.05.04
Í niðurlagi leiðara Morgunblaðsins sl. laugardag segir: „Þeir sem ruddu Saddam Hussein á brott í krafti þess að þar væri kúgari á ferð hafa verið afhjúpaðir fyrir ógeðsleg mannréttindabrot.“ Við hlið leiðarans er síðan grein eftir aðstoðarmann utanríkisráðherra, Björn Inga Hrafnsson, sem ...

10. Maí 2004

Óskiljanleg framkoma fjármálaráðherra

Geir H Haarde hefur að mörgu leyti verið farsæll fjármálaráðherra. Að sjálfsögðu verður ekkert horft framhjá því að sem fjármálaráðherra ber hann fulla ábyrgð á þeirri  stjórnarstefnu, sem hér hefur verið fylgt á undanförnum árum en afleiðingar hennar eru smám saman að birtast í aukinni misskiptingu gæðanna, niðurbroti á samfélagsþjónustu og samþjöppun á auði og völdum. Þrátt fyrir þetta nýtur Geir H Haarde talsverðs trausts. Það á til dæmis við um marga viðsemjendur fjármálaráðherrans. Innan BSRB og annarra heildarsamtaka, BHM og Kennarasambands Íslands, hefur almennt verið litið á Geir H. Haarde sem mann sátta, reiðubúinn að hlusta á rök gagnaðila og freista þess að ná samningum. Þess vegna er með öllu óskiljanlegt að ...

8. Maí 2004

Bush ósáttur við pyntingar – Halldór líka

Sú spurning vaknar í mínum huga, hve lengi sé eiginlega hægt að teyma okkur á asnaeyrunum. Það gladdi mig því að heyra Halldór Ágrímsson fordæma pyntingarnar í fréttatíma Sjónvarps. Ég kom inn í miðjan fréttatímann þar sem utanríkisráðherra var að úttala sig. Svo kom skýringin í afkynningu ...
Hafsteinn Orrason  

7. Maí 2004

Framsókn og tyggigúmmí

Eftir notkun Framsókn fer
flesta menn að stressa
því undir skó hún skellir sér
sem skítug tyggjóklessa.
Kristján Hreinsson, skáld

7. Maí 2004

Er forsætisráðherra að ofsækja Baug?

Frá mínum sjónarhóli þarf hvorki Baugur né oddviti Sjálfstæðisflokksins á neinni meðaumkun að halda og fær hana ekki frá mér. Og vegna þess að spurt er um ofsóknir á hendur Davíð Oddssyni og stjórnarmeirihlutanum, vil ég segja að þessar spurningar eru framhjá marki. Forsætisráðherra er ekki að ofsækja Baug. Og Baugur er ekki að ofsækja forsætisráðherra. Davíð Oddsson og stjórnarmeirihlutinn eru hins vegar að ...

7. Maí 2004

Kenningar, raunveruleiki og opinber rekstur.

Sæll Ögmundur,
Ég las grein þína í Morgunblaðinu um daginn, þar sem þú gagnrýndir Verslunarráð og hægrimenn fyrir mótsagnakenndan málflutning varðandi einkavæðingu og einkaframkvæmd. Uppistaðan í gagnrýninni virðist mér annars vegar sú, að hæpið sé að benda á stærðarhagkvæmni, en leggja um leið til að verkefni verði færð frá stórum ríkisstofnunum til smárra fyrirtækja. Hins vegar gagnrýnir þú talsmenn einkavæðingar og einkaframkvæmdar fyrir að einblína á kenningar, en líta ekki til reynslunnar...
Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur

7. Maí 2004

Varað við einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar!

Einn merkasti fræðimaður samtímans á sviði heilbrigðismála, sænski prófessorinn Göran Dahlgren, hélt fyrirlestur í vikunni um kerfisbreytingar í heilbrigðismálum og framtíðarsýn á því sviði. Göran Dahlgren var stjórnandi í sænska heilbrigðismálaráðuneytinu og hefur verið ráðgjafi sænsku ríkisstjórnarinnar en einnig ríkisstjórna í þróunarríkjum í Asíu og Afríku. Hann hlaut norrænu Lýðheilsuverðlaunin árið 2003 fyrir afburðaþekkingu, efnistök og nýja sýn á viðfangsefnið. Dahlgren varar mjög eindregið við markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins og varar einnig við gjaldtöku úr vasa sjúklinga en hún muni leiða til aukinna byrða á þá sem síst skyldi.

7. Maí 2004

Frjálshyggjan: kenning og framkvæmd

Þorsteinn Siglaugsson skrifar mér athyglisvert bréf,  sem birtist hér á lesendasíðunni í dag. Það er ekki að ástæðulausu að ég hef áður vísað í Þorstein Siglaugsson, sem á meðal hinna  “rökvísustu forsvarsmanna frjálshygjunnar og Sjálfstæðisflokksins”. Þorsteinn er að bregðast við blaðagrein, sem ég skrifaði í Morgunblaðið fyrir skömmu og er einnig að finna hér á síðunni. (Verslunarráðið brillerar aftur – og aftur). Ég hvet menn til þess að lesa greiningu Þorsteins...

6. Maí 2004

Er Fréttablaðið ósátt við tyggigúmmíkenninguna?

Í dag birtist grein eftir mig í Fréttablaðinu. Að mér forspurðum var greinin stytt, bæði fyrirsögn og sjálfur textinn. Greinin var vel innan þeirra lengdarmarka sem yfirleitt er á greinum af þessu tagi. Það vakti athygli mína að sá hluti textans sem var fjarlægður lýtur að Framsóknarflokknum og vilja hans til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Hef ég sett fram þá kenningu að Sjálfstæðisflokkurinn gæti ekki losnað úr samstarfinu við Framsókn jafnvel þótt vilji stæði til þess. Þessi kenning hefur verið kennd við tyggigúmmií. Hún kann að vera röng að mati Fréttablaðsins. En jafnvel þótt svo sé er óþarfi að fjarlægja hana...

6. Maí 2004

Er bókhaldið suður í Borgarfirði?

Í orði hafa fulltrúar Samfylkingarinnar barist fyrir því þjóðþrifamáli að stjórnmálaflokkarnir opni bókhald sitt þannig að greina megi meint hagsmunatengsl milli fyrirtækja og flokka og treysta með því lýðræðislegt vald almennra kjósenda. Frétt Ríkisútvarpsins miðvikudaginn 5. maí sýnir hins vegar að á borði eru Samfylkingarmenn vægast sagt tvöfaldir í roðinu í þessu merka máli og einnig með endemum seinheppnir - eins og raunar í svo mörgu öðru sem þeir hafa ...
Þjóðólfur

3. Maí 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Spennandi dagar

Ríkisstjjórnarmeirihlutinn hyggst setja lög sem takmarkar samþjöppun á fjölmiðlamarkaði. Þessu hefði undirritaður satt að segja ekki trúað fyrir fáum mánuðum. Hægri menn, einkum þeir í yngri kantinum, hafa þvert á móti talað um að markaðurinn ætti að ráða þessu sem öðru, og ekki nóg með það: Þeir hafa viljað selja Ríkisútvarpið og geta menn rétt ímyndað sér hvernig umhorfs yrði á fjölmiðlamarkaði eftir fáein ár ef sú ,,hugsjón” næði fram að ganga og...

3. Maí 2004

Davíð dómarinn

...Fullyrðingin sem er athyglisverðust er hins vegar fullvissa dómarans um að aðrir aðilar muni taka við rekstri Stöðvar 2. Hér er vísað inn í framtíðina. Spurningarnar sem menn hljóta að velta fyrir sér i ljósi ummæla dómars eru þessar: Hver á að fá að kaupa og reka Stöð 2 þegar búið er að taka fyrirtækið af þeim sem nú eiga það? Er það kannski gamla SÍS-samsteypan, Finnur Ingólfsson í VÍS og samvinnusjóðirnir, eða smásölublokkir sem ekki eru markaðsráðandi samkvæmt ráðherraúrskurði?...
Ólína

3. Maí 2004

Mikilvæg umræða um fjölmiðlafrumvarp

Í þjóðfélaginu hefur kviknað mikil umræða um fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Ég tel mjög mikilvægt að þessi umræða fái að dafna og þróast en verði ekki kæfð niður með því að keyra frumvarpið í gegnum þingið með offorsi. Helgi Guðmundsson, hinn eini sanni hágé, spyr í pistli hér á síðunni í dag hver sé afstaða þingflokks VG til frumvarpsins. Ólína beinir einnig áleitnum spurningum til okkar um afstöðu Framsóknar til málsins...

2. Maí 2004

Prestar gegn stríði og misskiptingu

Í áhrifamikilli predikun, sem útvarpað var í morgun hnykkti séra Gunnþór Ingason á nýlegri ályktun Prestastefnu Íslands þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til þess að draga tilbaka stuðning sinn við stríðsreksturinn í Írak. Séra Gunnþór varaði einnig við vígbúnaði í himingeimnum og vísaði þar augljóslega til ...

1. Maí 2004

1. maí á Höfn: Með lýðræði gegn skrifræði

"Hafa menn velt því fyrir sér, að skiptin sem boðið er upp á, er annars vegar samfélag, sem rekið er á forsendum lýðræðislegrar þátttöku og lýðræðislegs aðhalds og hins vegar samfélag sem reist er á forsendum fjármagns en með tilheyrandi og stöðugt fleiri eftirlitsstofnunum. Annars vegar almannasamfélagið með opnu lýðræðislegu aðhaldi og umræðu sem öllum er opin og hins vegar eftirlitssamfélagið, samfélag fjármagnsins þar sem kostnaðarsamt skrifræði gegnir hlutverki sýndarréttlætis. Á þessu tvennu er grundvallarmunur..."

30. Apríl 2004

Guðmundur R. Jóhannsson skrifar: Litið við á Kúbu

Ég fór til Kúbu fyrir skömmu sem ekki er í frásögur færandi.  Það hefur fjöldi íslendinga farið þangað á undanförnum árum.  Kúba hefur sérstöðu í hugum fólks, þessi eyja sem lenti í því að verða bitbein stórveldanna.  Í hugum margra er Kúpa líka einskonar forngripasafn þar sem tíminn standi í stað og margir vilja koma þangað meðan Kastró er enn á lífi því við fráfall hans muni allt breytast.

30. Apríl 2004

Mikill er máttur tilviljana

...Þegar undirliggjandi illdeilur milli forsætisráðherra og Baugs blossa upp þá koma jafnan fréttir frá embætti ríkislögreglustjóra af skyndilegum aðgerðum í langdreginni rannsókn á meintum efnahagsbrotum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og félaga. Og nú, þegar allt er á suðupunkti í samfélaginu vegna fjölmiðlafrumvarps forsætisráðherra, berast óvæntar fregnir af ...
Jónas Ó. Jóhannesson frá Kreppu

29. Apríl 2004

Það vantar reglur um tafir á beinum útsendingum og dreifingu dagblaða!

Ég lýsi eins og venjulega yfir fullum stuðningi við allt sem kemur úr smiðju Davíðs Oddssonar og tel eins og hann mikilvægt að koma böndum á rísandi auðvald í okkar ágæta landi. Tvennt mundi ég þó vilja sjá til viðbótar í fjölmiðlafrumvarpinu sem tekur, eins og kunnugt er, til útvarps- og samkeppnislaga. Þessi atriði varða annars vegar hömlur á útburð og dreifingu Fréttablaðsins og DV, eða annarra sambærilegra pappíra í framtíðinni, og svo hins vegar ...
Jón Grímsson frá Bisnesi

29. Apríl 2004

Fráleitt að afgreiða fjölmiðlafrumvarp í vor!

...Það væri til marks um grófa misbeitingu valds að knýja fram afgreiðslu þessa þingmáls fyrir þinglok í vor. Það er hins vegar ástæða til að hafa af því áhyggjur, að sú gæti orðið niðurstaðan. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins láta það óþægilega oft viðgangast að vera settir í aumkunarvert hlutverk, svipað því, sem er hlutskipti fulltrúa á málamyndaþingum í einræðisríkjum: Að hlýða foringjanum skilyrðislaust. Við slíkar aðstæður eru menn ekki pólitískir skákmenn, heldur taflmenn. Þeir tefla ekki. Það er teflt með þeim. Og Framsókn, já vesalings Framsókn. Hér ...

27. Apríl 2004

Japönum vottuð samúð

Gíslarnir japönsku frá Írak eru komnir heim heilir á húfi. Mér var létt. Ég hafði séð myndir af þeim í haldi með bandbrjálaða menn yfir sér með branda á lofti, öskrandi hótanir um líflát og tortúr. Ég hélt að öllum væri létt þegar fólkinu hafði verið sleppt. Nei, aldeilis ekki. Ráðamönnum í Japan kann að vísu hafa þótt gott að losna við vandann sem fylgdi gíslatökunni. En þeir hugsuðu fólkinu þegjandi þörfina. Samkvæmt fréttum virðist það hafa einnig átt við um stóran hluta japönsku þjóðarinnar. Það ótrúlega gerðist nefnilega, að eftir að fólkinu var sleppt úr haldi og það komið til síns heima í Japan sætti það ofsóknum. Svikarar stóð á skilti, sem því var sýnt við heimkomuna.

26. Apríl 2004

Valdsþjóðfélag

...Í þessu samfélagi leitast handhafar valdþáttanna við að  styrkja stöðu sína hver fyrir sig og gera aðra þætti háða sér, eða ná þeim undir sig. Þegar hins vegar valdssamfélaginu er ógnað byrja valdþættirnir að slá í takt eins og hjörtu tveggja gangandi elskenda við Reykjavíkurtjörn og verjast sem ein heild ógninni. Þessir valdsþættir eru hið efnahagslega vald, hið pólitíska vald, lagasetningarvaldið, dómsvaldið og fjölmiðlavaldið. Ísland er í raun ágætt dæmi um þessa breytingu vegna þess að hér eru hlutir sæmilega gegnsæir og forsætisráðherra landsins, 2. þingmaður Reykvíkinga og umboðsmaður 32% kjósenda í landinu, er holdgervingur þróunarinnar. Hann hefur á starfstíma sínum í gamla fangelsinu við Lækjartorg breytt lagasetningavaldinu þannig að...
Ólína

24. Apríl 2004

Leiðbeinandi í lýðræði

Fjölmiðlar vestanhafs gera mikið úr því þessa dagana hve mikið Bush Bandaríkjaforseti leggur upp úr því að honum sé ætlað það sögulega (trúarlega?) hlutverk að boða Írökum lýðræði að vestrænni fyrirmynd. Nú hefur verið skýrt frá því að John Negroponte verði skipaður sendiherra í Írak. Hann er núverandi sendiherra BNA hjá Sameinuðu Þjóðunum. Bandarískir fjölmiðlar rifja nú upp feril þessa manns. Staðnæmast þeir ...

23. Apríl 2004

Spyrjið Gunnar Birgisson!

Í viðtali Morgunblaðsins við Sigfús Jónsson, forstjóra Nýsis, kemur fram sú hugmynd að setja varðskipin í einkaframkvæmd. Þessi hugmynd er borin undir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra í Morgunblaðinu í dag. Björn segist aldrei hafa hugleitt þetta, en þó þyki honum þessi hugmynd "ekki fjarlægari en margt annað".  Ekki fjarlægari en hvað Björn? Eins og til dæmis að bjóða út embætti dómsmálaráðherra? Það er greinilegt að Björn Bjarnason, ráðherra talar hér samkvæmt gömlu forriti. Björn veit sem er, að allt ...

22. Apríl 2004

Eiríkur Bergmann og Sumardagurinn fyrsti

Eiríkur staldrar sérstaklega við þá yfirlýsingu Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns VG, nýlega að breyta þurfi orðræðu í íslenskri pólitík. Eiríkur kemst að þeirri niðurstöðu, að þetta sé til marks um að Vinstrihreyfingin grænt framboð sé búin að gefa upp á bátinn allar tilraunir til að breyta þjóðfélaginu í átt til jafnaðar og félagslegs réttlætis. Ég hef skilið Katrínu Jakobsdóttur svo, að hún telji ...

21. Apríl 2004

Um ábyrgð og ábyrgðarleysi á markaði

Þessi spurning gerist mjög áleitin eftir því sem fram líða tímar. Sífellt algengara virðist , ekki síst á meðal yngri "athafnamanna" að þeir telji sig ekki bera neina ábyrgð gagnvart öðru en eigin pyngju eða pyngju sameigenda sinna í fyrirtæki. Á þetta eitt beri að einblína. Bjórframleiðendur skirrast ekki við að brjóta niður viðleitni samfélagsins til að hefta áfengisneyslu með banni við auglýsingum, tryggingafélög rífa göt á samtryggingakerfið ef þau telja sig þar eygja hagnaðarvon og nú síðast reyna bankarnir að grafa undan húsnæðiskerfi landsmanna...

21. Apríl 2004

Hvers vegna þögn?

Dómsmálaráðherra hefur brotið tvenn lög: jafnréttislög og stjórnsýslulög. Lengi vel heyrðust engin viðbrögð frá öðrum þingmönnum um þetta mál. Af hverju þessi þögn?
Raganr Ó.
Það er rétt að fyrst var þögn en síðan hafa heyrst hljóð. Ég held að hin upphaflega þögn ...

21. Apríl 2004

Vantraust á Björninn

Þú þarft ekki að vera bjartsýnismaður til að lýsa yfir vantrausti. Vilji fólksins er með ykkur og i stað thess að vona sifellt eftir innri rotnun eigið þið að taka  róttækt frumkvæði, til að sýna og sanna að þið séuð fær um slikt. Vantraust a Björninn, takk fyrir.
EH

21. Apríl 2004

Velkominn hágé

Hver man ekki eftir undirskriftinni hágé á Þjóðviljanum forðum? Þetta var að sjálfsögðu undirskrift Helga Guðmundssonar, rithöfundar, stjórnmálamanns og verkalýðsforkólfs til langs tíma, en Helgi stóð um árabil í framvarðarsveit verkalýðsbaráttunnar – og lætur reyndar enn til sín taka á því sviði. Í gær birtist pistill eftir Helga Guðmundsson hér á síðunni í dálkinum frjálsir pennar. Helgi mun skrifa pistla hér annað veifið og er ég viss um að margir munu hafa áhuga á...

20. Apríl 2004

Eru karlar ekki tilbúnir að fórna völdum?

Drífa Snædal, ritari VG, skrifar mjög áhugaverða og vekjandi grein hér á síðuna í gær um kvennabaráttu. Hún setur þessa baráttu í sögulegt samhengi en hennar niðurstaða er sú, að þótt réttindabarátta kvenna hafi tekið breytingum í tímans rás, þá hafi hún ekki tekið eðlisbreytingu...

20. Apríl 2004

Helgi Guðmundsson skrifar: Hin nýja öld Ameríku

Umræður um málefni heimsins eiga til að lenda í skringilegum farvegi hér á landi og er stundum engu líkara en helstu valdamenn landsins geti ekki sett það sem er að gerast í eðlilegt samhengi. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hafa verið helstu talsmenn ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum, eins og eðlilegt má teljast. Utanríkisráðherra hefur beitt sér fyrir jákvæðum breytingum á utanríkisstefnunni í þá veru að auka stuðning við þróunarlöndin og standa að þeim verkefnum af meiri myndleik en áður. Aftur á móti eru þeir félagar furðulega...

20. Apríl 2004

A license to kill

Sæll Ögmundur.
Maður trúir varla sínum eigin augum og eyrum þegar maður les frásagnir frá Írak þessa dagana. Ég var nokkuð sáttur við málflutning Hallgríms Thorsteinsson fjölmiðlamanns sem var með þér í Silfri Egils um helgina. Mjög áhrifarík var lýsing hans á atburðarásinni í Írak, sérstaklega því sem gerðist eftir að ...
Hafsteinn Orrason

20. Apríl 2004

Vantraust á barn síns tíma?

Sæll Ögmundur.
Hefur ykkur ekki dottið í hug að bera upp vantrausttillögu á dómsmálaráðherra í þinginu?
G. Helgadóttir
Heil og sæl.
Sannast sagna hefur þetta ekki verið rætt, einfaldlega vegna þess að...

19. Apríl 2004

Kaliforníumenn gegn misnotkun lífeyrissjóða í þágu einkavæðingar

Lífeyrissjóðir fara nú ört vaxandi víða um heim og eru orðnir mjög fyrirferðarmiklir í fjármálalífinu. Hér á landi eru eignir lífeyrissjóðanna komnar yfir 700 milljarða og ef fram heldur sem horfir eru líkur á að eignir þeirra verði yfir 1000 milljörðum fyrir lok árs 2007. Lífeyrisjóðirnir þurfa að finna öllu þessu fjármagni farveg og hef ég oft ...

19. Apríl 2004

Þankar á vori

...Björn okkar vakti líka ánægju þegar hann lýsti því yfir í sjónvarpi að hans aðalstyrkur væri staðfesta.  Hann sýndi staðfestu með að fylla ekki Hæstarétt af  gömlum kerlingum heldur af nýju blóði, forsætisráðherrablóði.  Það eykur líka öyggi okkar að...
grj 

19. Apríl 2004

Drífa Snædal skrifar: Fórnarkostnaður kynjajafnréttis

Við upplifum magnaða tíma í jafnréttisbaráttunni og þegar við lítum til baka eftir nokkur ár munum við minnast þessara tíma sem þriðju bylgju femínismans. Fyrsta bylgjan var barátta fyrir formlegu jafnrétti, kosningarétti kvenna og réttinum til að stunda nám á við karlmenn. Önnur bylgjan er oft kennd við rauðsokkurnar, en þá þegar var orðið ljóst að lagalegt jafnrétti væri ekki nóg. Meira þurfti að koma til og baráttan gegn hinum hefðbundnu kynjahlutverkum hófst fyrir alvöru. Launajafnrétti var sett á oddinn ...

18. Apríl 2004

Drápu Íslendingar leiðtoga Hamas?

Í magnaðri predikun séra Arnar Bárðar Jónssonar, sem útvarpað var úr Neskirkju í Reykjavík í Ríkisútvarpinu í dag, var spurningu á þessa lund varpað fram og brá prestur þar út af skrifuðum texta. Með spurningunni vildi séra Örn Bárður minna okkur á að við erum hluti af alþjóðasamfélaginu, látum þar til okkar taka og að því fylgi ábyrgð. Hann minnti á siðferðilega ábyrgð mannsins gagnvart meðbræðrum sínum, óháð trúarbrögðum. Hann kom víða við, fjallaði þó fyrst og fremst um alþjóðamál en vék einnig að öðrum málum, m.a. frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um málefni útlendinga. Tilvísanir í bókmenntir voru ríkulegar, sannkölluð veisla! ...

17. Apríl 2004

Blairstjórnin breska fjármagnar einkavæðingaráróður í þróunarríkjum

... Þess vegna kom það mörgum á óvart þegar breska stórblaðið Guardian greindi frá því í janúar, að Adam Smith Institute nyti ríflegs ríkisstuðnings. "Helsta áróðurssmiðjan um einkavæðingu fjármögnuð með almannaé", sagði blaðið. Focus, sem er málgagn Heimssamtaka starfsfólks í almannaþjónustu, (Public Service International, PSI), tekur málið upp og segir að um sé að ræða fjárstuðning sem nemur 8 milljónum sterlingspunda...

17. Apríl 2004

Ætlaði að verða læknir en varð arabi

... Ég fór í kjölfarið að leita mér upplýsinga um Ray Hanania og rakst þar á þessa frábæru grínagtugu grein sem ég sendi hér slóðina á. Þarna kemur fram hvert hlutskipti fólki er búið þar sem tilveran er alltaf kynþáttagreind...
Kveðja, Björn

16. Apríl 2004

Fjölmenn og velheppnuð ráðstefna um kjaramál


Súlnasalurinn á Hótel Sögu var þétt setinn í gær þegar fjallað var um kjaramál starfsmanna ríkisins. Heildarsamtök starfsfólks í almannaþjónustu stóðu að ráðstefnunni, BSRB, BHM og Kennarasamband Íslands. Fjallað var um nýskipan í ríkisrekstri og launakerfi ríkisins, sem gengur undir því frumlega heiti Nýja launakerfið. Fræðimenn og fulltrúar samningsaðila reifuðu málin auk þess sem efnt var til almennra umræðna í kjölfarið. Á þessari vefslóð BSRB er greint frá því hverjir fluttu framsöguerindi á fundinum en ég var í þeim hópi. Mitt verkefni var að setja málin í sögulegt samhengi og einskorðaði ég mál mitt við launakerfið en fjallaði einnig um nýskipan í ríkisrekstri og þær afleiðingar, sem hún hefði haft í för með sér.

16. Apríl 2004

Ósjálfstæði í utanríkismálum

Birtist í Morgunblaðinu 15.04.04.
Þegar upp er staðið og ummæli manna krufin þá hlýtur maður að fallast á, að sennilega sé það rétt hjá Halldóri Ásgrímssyni, að ekki er öllum gefið að hugsa málin á yfirvegaðan og rökrænan hátt. Spurningin er hins vegar hvort það eigi einvörðungu við um íslamska öfgamenn...

16. Apríl 2004

Hvað segir ríkisstjórnin um geimvopnaáætlun Bandaríkjastjórnar?

Birtist í Fréttablaðinu 15.04.04.
Þetta lítur sem sagt allt alveg ljómandi vel út að mati ríkisstjórnar Íslands – enda allar líkur á að við fáum að vera með! Samkvæmt fréttum virðist mönnum líka ganga ágætlega að réttlæta vígvæðinguna. Þar er gamalkunnugt ráð að koma sér upp óvinum sem þarf að verjast gegn...

15. Apríl 2004

Barn síns tíma

Víst þarf sonur Bjarna Björn
í baráttu að glíma
og nota oft þá veika vörn
að vera barn síns tíma.
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld

14. Apríl 2004

FVÚ – RÚV?

Sæll Ögmundur.
Þú ert mikill ríkisútvarpsmaður en nú vil ég biðja þig að velta vel fyrir þér nokkrum atriðum sem okkur óbreyttum hlustendum blöskrar. Þegar Ríkisútvarpið virtist ætla að taka sig saman í andlitinu og setja á flot fréttaskýringaþátt þá fengu menn fyrst forsætisráðherra landsins til að skýra stjórnmálaástandið. Þegar Bandaríkjamenn réðust inn í Írak í olíuleit þá fengu menn núverandi dómsmálaráðherra landsins til að skýra út fyrir þjóðinni ástæður innrásarinnar og nauðsyn baráttunnar fyrir lýðræði í heiminum. Þegar lífið var svo murkað úr þúsund manns í helgarferð bandarísku herforingjanna til borgar í Írak þá fengu menn aðstoðarmann menntamálaráðherra, fyrrverandi Morgunblaðsmann og...
Ólína

14. Apríl 2004

Vill nefnd um "framkvæmdavaldsútvarp"

Í bréfi, sem heimasíðunni barst í dag kemur fram hörð gagnrýni á RÚV og er lagt til að í stað þess að einblína á eignatengsl í fjölmiðlaheiminum skuli menn skoða tengsl Ríkisútvarpsins við framkvæmdavaldið. Í umræddu bréfi frá Ólínu segir m.a.: " Og hvernig stendur á að menn skipa ekki nefnd til að kortleggja samband framkvæmdavaldsins og stofnunarinnar í Efstaleiti með sama hætti og menn þykjast nú hafa kortlagt eignarhald á íslenskum fjölmiðlum? Forsætisráðherra þarf ekki að skipa nýju nefndina ...

13. Apríl 2004

Bandarískur blaðamaður segir augljóst hvað vaki fyrir Sharon

Bandaríski blaðamaðurinn Ray Hanania segir í nýbirtri grein augljóst hvað vaki fyrir ísraelska forsætisráðherranum: Að framkalla ofbeldi af hálfu Palestínumanna. Með því móti styrki hann stöðu þeirra Ísraela sem vilji meiri landtöku á herteknu svæðunum. Í grein á vefsíðu sem er að finna í lokin á þessari samantekt, segir Ray Hanina, að morðið á Ahmed Yassin, helsta forsvarsmanni Hamas samtakanna, nú í lok marsmánaðar, hafi verið úthugsað einmitt með þetta fyrir augum. Ferill Ariels Sharons sé blóði drifinn. Á sjötta áratug síðustu aldar hafi Sharon farið fyrir "aðgerðahópi" ("hit-squad"), sem hafi myrt fjölda manns. "Ef hægt er að líkja einhverjum við bin Laden", segir Ray Hanina, þá er það Arile Shoron, “sem þurrkar út alla möguleika á að koma á friði". Hanina heldur því fram að Sharon hafi talið ísraelsk stjórnvöld á það á áttunda áratugnum, að styrkja Ahmed Yassin í sessi sem mótvægi við Yassir Arafat leiðtoga Frelsishreyfingar Palestínumanna, PLO, og staðhæfir hann að ...

12. Apríl 2004

Kaldar kveðjur frá Kára og misskilin söguskýring

Fyrir ríkisstjórn sem nánast hefur verið í rassvasa Kára Stefánssonar öll þessi ár hljóta þetta að vera kaldar kveðjur. Þegar verið var að koma fyrirtækinu á laggirnar lét forsætisráðherra þjóðarinnar stilla sér upp eins og glitrandi tryggðapanti við undirskrift samninga í Perlunni í Reykjavík, á milli forstjóra ÍE annars vegar og fjölþjóðafyrirtækisins Hoffman La Roche hins vegar. Þetta voru augljós skilaboð til fjárfesta. Enginn vafi leikur á að þessi nána tenging fyrirtækisins við ríkisvaldið styrkti mjög stöðu þess í öllum viðskiptasamningum. Þá var það nú meira en sýndargreiði þegar Landsbankinn og Búnaðarbankinn keyptu bandaríska áhættufjárfesta ...

10. Apríl 2004

Barn síns tíma

Kærunefnd jafnréttismála komst nýlega að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðherra hefði átt að skipa konu í embætti hæstaréttardómara í stað karls, enda stóð honum til boða kvenkyns umsækjandi sem var ekki einasta jafn hæfur og sá sem skipaður var, heldur hæfari...
Þrándur

8. Apríl 2004

Verslunarráðið brillerar aftur – og aftur

Birtist í Morgunblaðinu 07.04.04
Nú síðan kom skýrsla  í haust um að fækka mætti ríkisstofnunum um 30! Þetta þótti ekki í frásögur færandi, enda menn orðnir ýmsu vanir. En viti menn þessi skýrsla Verslunrráðsins dúkkar nú upp á Alþingi sem þingsályktunartillaga, flutt af þingmönnum úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu, með Bjarna Benediktsson í broddi fylkingar. Ekki er okkur sagt hvaða ...

8. Apríl 2004

Þekkir spilakassa af eigin reynslu

En það var nú komið þannig fyrir mér í lokin að ég var farin að hugleiða það að taka líf mitt út af spilafíkninni. Kassarnir voru farnir að ráða lífi mínu. Ég hætti að stunda skólann og svo fór í lokin að ég náði ekki öllum prófum í lok grunnskólans. Reyndar ekki bara út af spilafíkn heldur út af öðrum málum einnig....
Með kveðju,
Rúmlega tvítugur með reynslu af spilakössum.

8. Apríl 2004

Áhrifaríkt bréf um spilakassa á síðunni

Í lesendadálkinum hér á síðunni í dag birtist bréf frá 25 ára gömlum manni um spilakassa og reynslu hans af þeim. Bréfið þykir mér lýsandi og áhrifaríkt þótt engin séu þar stóryrðin. Ungi maðurinn byrjaði smátt, með því að setja klínk í kassa 11 eða 12 ára.  "Ég byrjaði að setja...

6. Apríl 2004

Harmafregn frá Verslunarráði Íslands

Þeim sem kynnt hafa sér frumvarp ríkisstjórnarinnar um vatnsveitur óar við þeirri opnun sem þar er að finna á einkavæðingu Gvendarbrunnanna og annarra vatnsveitna í landinu. Enda þótt vatnsveitur skuli vera að meirihluta til í eigu samfélagsins, ríkis eða sveitarfélaga, samkvæmt frumvarpinu, þá geta einkaaðilar engu að síður náð ráðandi hlut. Dæmi um þetta eru svokallaðir kjölfestufjárfestar í hlutafélögum. Þegar danski Landssíminn var seldur á sínum tíma þá fékk bandarískt fyrirtæki, Ameritec minnir mig að það hafi heitið, ráðandi hlut sem byggði þó aðeins á rúmlega 30% eignarhlut.

6. Apríl 2004

Þakkir til BSRB

Sæll, Ögmundur
Ég var að lesa grein þína um harmafregnina frá Verslunarráði Íslands, þar sem ráðið grætur yfir því að ekki sé hægt að einkavæða Gvendarbrunnana og aðrar vatnsveitur í landinu. Þótt ég sé ekki ánægð með útkomuna úr vatnsfrumvarpinu einsog þú lýsir henni og undrast vesaldóm ríkisstjórnarinnar, þá velkist ég ekki í vafa um, að þið í VG hafið  náð...
Sunna Sara 

5. Apríl 2004

Tveir háðir spilafíkn – á hvorn á að hlusta?

Birtist í Fréttablaðinu 03.04.04
En hverjar eru röksemdir spilafíklanna sem standa vinningsmegin við borðið, þ.e. þeirra sem fá gróðann í vasann, og er þar vísað til forsvarsmanna HÍ og Íslandsspils? Þeir segja að fráleitt sé að einblína á spilakassa, menn tapi miklu hærri fjármunum í annars konar happdrættum og spilamennsku og benda þeir síðan á að þær stofnanir sem njóta gróðans gegni mikilvægu samfélagslegu hlutverki og vinni þjóðþrifaverk. Í öllu þessu kann að vera...

5. Apríl 2004

Guardian um IMF og OECD: Stofnanir staðnaðrar hugmyndafræði

Eitt athyglisvert segir leiðarahöfundur að auki, sem er umhugsunarvert fyrir okkur hér á landi og það snýr að hrifningu OECD á ákvörðun bresku stjórnarinnar að koma á skólagjöldum við breska háskóla. Þar segir að skýringin á hrifningu OECD sé sú, að ...

4. Apríl 2004

William Blum og valkostur við hernaðarútgjöld

Hér á þessari síðu hefur áður verið vitnað í William Blum, þekktan skríbent og höfund bókarinnar "Rogue State" eða "Fanta ríkið".  Blum hefur talað mjög ákaft og á sannfærandi hátt gegn fjáraustri til hermála. Hér er lítill þanki frá honum, styttur þó: Hinn 6. mars, hvolfdi ferju við Baltimore...

3. Apríl 2004

Herforingi í NATO eða utanríkisráðherra vopnlausrar þjóðar?

Ekki trúi ég því að ég sé einn um að fara hjá mér þegar Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra vor, tjáir sig um hernaðarbandalagið NATO. Samkvæmt fréttum frá fundi utranrikisráðherra bandalagsins í Brussel í gær, eru vaxandi efasemdir um það í röðum aðildarríkjanna, að sú hernaðarstefna sem því hefur verið sett, sé rétt. Joscha Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, telur að ...

2. Apríl 2004

Rauði kross Noregs axlar ábyrgð gagnvart spilafíkn

Í fréttinni í Dagbladet segir að björgunarsveitir og Rauði krossinn hagnist vel á spilakössum en með nýju fyrirkomulagi munu tekjur þessara aðila rýrna. „Árið 2003 þénuðum við um fimm milljarða (ísl) á spilakössum. Fyrirsjáanlegt er að þessi upphæð verði 2,2 milljarðar á næsta ári. Það þýðir tap upp á 2,8 milljarða. Engu að síður ...

1. Apríl 2004

Arundhati Roy: Heimsveldisstefnu og lýðræði blandað á staðnum

Einhver kröftugusta baráttukona fyrir mannréttindum, sem nú er uppi, er án nokkurs vafa indverska konan Arundhati Roy. Skrif hennar og ræður eru sterkar og hrífandi. Eina slíka ræðu flutti hún í Harlem í New York í maí síðastliðnum. Í New York var Arundhati Roy á vegum, eða í samstarfi við Samtök um Efnahagsleg og Félagsleg Réttindi ( Center for Economic and Social Rights, CESR).
Í upphafi ræðu sinnar segir Arundhati Roy að einhverjum kunni að finnast orka tvímælis að indversk kona skuli komin til Bandaríkjanna til að gagnrýna það ríki. "En þegar land hættir að vera land og verður heimsveldi þá verður eðlisbreyting á gjörðum þess og hlutverki. Ykkur til skýringar þá tala ég sem þegn í heimsveldi, þræll sem gagnrýnir konung sinn."

1. Apríl 2004

CESR: Við getum ekki leyft okkur þann munað að örvænta

Fyrirsögnina hef ég eftir Roger Normand, framkvæmdastjóra Rannsóknarstofu Efnahagslegra og Félagslegra Réttinda (Center for Economic and Social  Rights, CESR).

1. Apríl 2004

NATO á leið til fortíðar – við því þarf að bregðast

Sjö ný ríki, öll í Mið- og Austur-Evrópu, gengu í NATO í vikunni. Bush Bandaríkjaforseti fagnaði þeim ákaflega og kvað inngöngu þeirra styrkja hernaðarbandalagið. Hann sagði öll ríkin hafa verið "fanga heimsveldis" og vísaði þá að sjálfsögðu til Sovétríkjanna. Þetta er að hárrétt en óneitanlega er skrýtið...

1. Apríl 2004

Mikilvæg umræða um spilafíkn

Birtist í Morgunblaðinu 31.03.04
Sú spurning vaknar í mínum huga hvort engu máli skipti hverjir það eru, sem fjármagna mannúðina? Ef það er nú svo, sem ég tel vera, að upphæðirnar komi að stærstum hluta frá fólki sem ekki er sjálfrátt gerða sinna, er m.ö.o.haldið spilafíkn, hefur lagt eigið líf og fjölskyldu sinnar í rúst og er jafnvel í sjálfsvígshugleðingum fyrir vikið – þá hlýtur það breyta viðhorfi okkar til þessarar leiðar til fjáröflunar. ...

31. Mars 2004

Lífeyrisumræða komin inn á vafasamar brautir?

Sæll félagi.
...Þetta er einfaldlega rangt hjá þér félagi, ég tók skuldir umfram eignir, bæði áfallið og væntanlegan "skort" á tekjum næstu áratugina. Þetta er í samræmi við lög um lífeyrissjóði og góða reikningsskilavenju endurskoðenda! Hvar ég er að beita rangfærslum sé ég ekki og finnst þú kominn á nýja braut í þínum málflutningi!
Kveðja, Gylfi

30. Mars 2004

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson skrifar: Grunnskólabyrjun tvisvar á ári

Á hverju hausti byrja á fimmta þúsund sex ára börn í grunnskóla. Þau eru yfirleitt strax sett í mismunandi stóra hópa, sem oftast eru kallaðir bekkir, og eru síðan hluti af slíkum hóp mestalla sína grunnskólatíð. Þannig hefur skólastarf verið í eina til tvær aldir, þ.e. síðan skólum með nútímasniði var komið á fót í iðnbyltingunni...

30. Mars 2004

Nýhugsun Ingólfs Á Jóhannessonar

Nýlega var hér á síðunni frásögn af ráðstefnu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um menntamál. Þar var m.a. fjallað mikið um leikskólastigið. Á meðal þeirra sem það gerðu var Ingólfur Á Jóhannesson, prófessor í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri. Hann setti fram kenningu um hvaða leiðir væru heppilegastar fyrir ungviðið að fara þegar það heldur úr leikskóla yfir í grunnskóla. Ingólfur segir íhaldsemi valda því að við...

30. Mars 2004

Íraksslóðir frá TFF

Athyglisverðar vefslóðir um Írak birtast í síðasta fréttabréfi frá sænsku rannsóknarstofnuninni, Transnational Foundation for Peace and Future Research (TFF). Það gagnlegt fyrir áhugafólk um málefnið að fá á einu bretti margar góðar vefsíður og er það ástæða þess að ég ákvað að koma þeim á framfæri við lesendur síðunnar. Að öðru leyti vil ég næla með ...

28. Mars 2004

Morgunblaðið glennir upp munninn – á okkur

Reynir Jónsson, yfirtannlænir hefur verið óþreytandi baráttumaður fyrir úrbótum á sviði tannlækniga, stundum gegn talsverðu andstreymi og á lof skilið fyrir staðfestu sína. Þingmenn VG, og vísa ég þar bæði í eigin mál og Þuríðar Backman, hafa með skiplegum hætti flutt þingmál um alllangt árabil, sem ganga í þá átt, sem Reynir Jónsson bendir til og er það fagnaðarefni að hann skuli nú telja að forsendur hafi skapast...

27. Mars 2004

Að skjóta og sprengja

Halldór Ásgrímsson verðandi forsætisráðherra segir að menn hljóti að styðja vini sína. Væntanlega á ráðherran við að annars sé vináttan bara plat og geta allir tekið undir það. Tilefni þessarar staðhæfingar eru athugasemdir fólks (sem er þá varla vinir vina sinna eða hvað?) við uppáskrift íslensku ríkisstjórnarinnar á innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak. Kenning ráðherrans er einföld: Við erum...
Þrándur.

27. Mars 2004

Vinátta eða hlýðni?

Í bréfi frá Þrándi hér á síðunni í dag eru athyglisverðar vangavletur um siðferðið í Hvíta húsinu í Washington,um hefnigirni og  fyrirgefningu syndann og síðast en ekki síst um vináttuna. Þrándi þykir íslenskir ráðamenn rugla saman vináttu annars vegar og hlýðni hins vegar. Vináttan eins og þeir túlka hana, segir hann ...

26. Mars 2004

Ekki léti ég Halldór Blöndal skipa mér í lífsýnatöku

Ekki svo að skilja að forseti Alþingis hafi á því einhvern sérstakan áhuga að skikka mig í slíkt próf. Aldrei hefur verið ýjað að slíku af hálfu forseta þingsins. En mér dettur þessi samlíking í hug vegna þess að hann fer með fyrirsvar í stjórn þingsins. Stjórnendur Álversins í Straumsvík láta alla sína starfsmenn undirrita plagg þar sem þeir fallast á að gangast undir læknisskoðun hvenær sem stjórnendum fyrirtækisins þóknast. Markmiðið er sagt vera að uppræta notkun vímuefna á vinnustað.

25. Mars 2004

Á hvern ætlar NATO núna að ráðast í Kosovo?

Svo virðist sem hafin sé skipulögð herferð til að hrekja Serba frá Kosovo. Tugir manna hafa verið felldir og hús brennd til grunna. Samkvæmt fyrstu fréttum hófst ofsóknarhrinan eftir að fréttir birtust í albönskumælandi fjölmiðlum um að serbneskir menn hefðu orðið þess valdandi að þrjú börn, af albönsku bergi brotin, drukknuðu í ánni Ibar. Þessi tildrög eru nú stórlega dregin í efa og er því haldið fram að þetta hafi verið liður í þaulskipulagðri áróðursherferð til að kynda undir hatur í garð Serba. Jonathan Eyal, forstöðumaður Royal Institute of Armed Forces í London er á meðal þeirra sem fullyrðir að svo sé. Á döfinni sé brottflutningur fjölmennra sveita NATO frá Kosovo og vilji forsvarmenn Albana nú knýja á um aukna sjálfstjórn eða sjálfstæði Kosovo. Jonathan Eyal segir að alþjóðlegir fjölmiðlar bregðist fullkomlega. Þeir setji þetta upp sem átök á milli Serba og Albana, slíkt sé fráleitt. Í þessu sambandi er bent á að í Prizren, svo dæmi sé tekið,  þar sem "átök" hafa orðið, búi 100.000 Albanir og 63 Serbar!

24. Mars 2004

10 litlir Yassinar og mótsagnakennd afstaða Íslands

Umhugsunarverð var fréttin, sem barst frá Palestínu í gær, að fáeinum klukkustundum eftir morðið á Ahmed Yassin, forsvarsmanni Hamas samtakanna, hafði tíu nýfæddum börnum verið gefið nafn hans. Faðir eins barnsins sagði að þar með vildi hann stuðla að því að sá vilji Yassins yrði að veruleika, að yrði hann ...

24. Mars 2004

Davíð og Halldór sanni mál sitt

Birtist í Fréttablaðinu 24.03.04.
Það er kominn tími til að Íslendingar átti sig á ábyrgð sinni í þessum stríðsrekstri. Við berum þar fulla ábyrgð. Utanríkisráðherra Íslands lýsti því yfir síðastliðið vor að hann þakkaði sínum sæla að þurfa ekki að senda íslenska menn í stríðið en bætti við, "ég dáist hins vegar að mönnum eins og Tony Blair sem geta tekið slíkar ákvarðanir með yfirveguðum hætti". Nú hefur komið í ljós að yfirvegun þeirra ...

22. Mars 2004

Verkalýðshreyfingin minnir á vatnið

Í seinni tíð hefur verið tekist á um eignarhald á vatni og hefur verkalýðshreyfingin reynt að verja almannahagsmuni gegn ásælni fyrirtækja og fjárfesta að komast yfir drykkjarvatnið og gera það að verslunarvöru. Hér á landi hefur BSRB öllum samtökum framar ...

21. Mars 2004

Er Davíð að hætta – skiptir það máli?

Í rauninni þarf það ekki að vera neitt undarlegt að fólk og fjölmiðlar skemmti sér yfir gátunni um hvað Davíð Oddsson ætlar að taka sér fyrir hendur við stólaskiptin í haust. Fréttablaðið slær því upp ...

20. Mars 2004

Ástæður fyrir hernámi Íraks sífellt skýrari

Þetta er sem sagt maðurinn sem nú ofbýður ofstækið og hagsmunagæslan fyrir bandarískt auðvald. Og ekki man ég betur en Paul O´Neill hefði verið forstjóri Alcoa. Varla getur hann staðið mjög langt til vinstri. Alla vega er hann ekki í Vinstri grænum! ...

20. Mars 2004

Málstofa um menntamál: Beðið um skóflu og kaðal en fá teskeið og tvinna

Ingólfur varpaði fram þeirri spurningu hvort menn teldu unnt að fyrirskipa fjölbreytni. Hann kvað svo ekki vera. Hins vegar réði skipulagsformið hver tilhneigingin yrði í því efni. Tók hann dæmi, sem mér þótt frumlegt og skemmtilegt. Hann gagnrýndi þá afstöðu kennara að vilja búta árið niður þar sem allir ættu samleið, innan skólans, t.d. í frí og úr fríum. Hvers vegna ekki láta nemendur koma inn í skólann á mismunandi tímum, til dæmis hæfu sex ára börn nám í grunnskóla þann mánuð sem þau fylla sex ár? Þessi aðkoma að skólanum á mismunadi tímum sem þó er miðuð við einstaklinginn, mun að öllum líkindum stuðla að því að...

19. Mars 2004

Foringjapólitík

Birtist í Fréttablaðinu 18.03.04.
Davíð Oddson lætur ríkið skrifa um sig sagnfræðirit og nú segist forsetinn valdamaður sem vilji geta talað hátt og svarað fyrir sig þegar á hann er ráðist – væntanlega af forsætisráðherranum.
Er verið að setja þjóðina upp á áhorfendapalla? Stendur til að við kjósum yfir okkur menn – valdamenn - til að tala yfir okkur og fyrir okkur?...

18. Mars 2004

Gleymum ekki dauða Rachel Corey

Fáir atburðir hafa haft eins sterk áhrif á mig og morðið á Rachel Corey. Í gær var liðið eitt ár frá þeim atburði. Rachel reyndi að koma í veg fyrir að ísraelsk jarðýta eyðilegði hús Palestínumanna í bænum Rafah á Gaza svæðinu. Valtað var yfrir hana og lést hún af þeim sökum. Morðinginn gengur laus – sennilega með medalíu – enda að vinna sína vinnu. Rachel Corey var 23 ára gömul....

17. Mars 2004

Um grunna umræðu og djúpa

Formaður Rafiðnaðarsambandsins, Guðmundur Gunnarsson, skrifar lesendabréf í DV í gær og gagnrýnir þá umræðu sem á sér stað í viðræðuþáttum ljósvakamiðlanna, m.a. um nýgerða kjarasamninga. Guðmundi þykir umræðan grunn. Sérstaklega lýsir hann furðu á vanþekkingu á stöðu lífeyrismála. “Hvar í veröldinni myndi það viðgangast ...

16. Mars 2004

Magnús Þorkell Bernaharðsson skrifar: Írak og Spánn – mars 2004

Hin nýja bráðabirgða stjórnarskrá Írak er að mörgu leyti merkilegt og sögulegt plagg. Stjórnarskráin er söguleg að því leytinu til að þetta er metnaðarfull yfirlýsing sem á sér fáar hliðstæður í þessum hluta heimsins. Talað er um að Írakar séu sjálfstæð þjóð, með þrískipt vald...

16. Mars 2004

Made in America

Í dag birtist hér á síðunni afar fróðlegur pistill eftir Magnús Þorkel Bernharðsson, fræðimann í Bandaríkjunum, um hina nýju stjórnarskrá í Írak og hryðjuverkin á Spáni. Magnús Þorkell segir nýja stjórnarskrá Íraks merkilega fyrir margra hluta sakir en það geti hins vegar torveldað framhaldið að...

16. Mars 2004

Gyðingar og Palestína – Sara Roy, kyndilberi frelsisins

Í þeim skelfilega harmleik sem heimurinn verður nú vitni að í Palestínu er einn hópur sem ég reyni að missa aldrei sjónar af. Það er fólkið sem heldur, öllum öðrum fremur, mannlegri reisn, ekki bara sinni eigin; það heldur uppi reisn mannkynsins alls. Þetta eru Gyðingar og Palestínumenn, sem tala fyrir friði hvað sem á dynur, láta eigin hagsmuni eða hagsmuni "sinna eigin" aldrei villa sér sýn. Þess vegna verða þeir "okkar allra", kyndilberar frelsisins. Þetta er fólkið sem...

15. Mars 2004

Misskilningur stjórnarandstöðu

Ég held að enginn geti láð þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að spyrja forsætisráðherrann í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag hvort yfirlýsingar hans sjálfs í þessa veru að undanförnu og annarra ráðherra ríkisstjórnarinnar, nú síðast Árna Magnússonar, boðuðu stefnubreytingu af hálfu ríkisstjórnarinnar....

14. Mars 2004

Stefnubreyting hjá Framsókn eða aumkunnarvert hlutskipti?

Margan manninn rak í rogastans við ummæli Árna Magnússonar, félagsmálaráðherra á Iðnþingi á föstudag þegar hann hélt uppi málflutningi sem var nánast orðréttur úr ræðum þingmanna Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs nú um árabil. Þinngmenn VG vöruðu við því að einkavæðing ríkisbanaknna myndi einmitt hafa í för með sér þær breytingar ...

14. Mars 2004

Ljósglæta í máli utanríkisráðherra

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, var beðinn um að fílósófera um utanríkismál í útvarpsþætti í dag. Hvaða erindi ættu Íslendingar að hans mati í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna? Þetta lék þáttastjórnendum forvitni á að vita. Við erum friðelskandi, sagði Halldór, og við erum...

13. Mars 2004

Kristján Hreinsson, skáld skrifar um: ,,OPINBERUNARBÆKUR”

Þegar menn telja sig knúna til að fegra eigin samvisku með því að láta rita um störf sín opinberunarbækur, þá er jafnan spurt um heilindi téðra manna, og þeim sem spyrja verður allajafna auðvelt að vefengja þau svör sem berast, einkum vegna þess að opinberun sjálfánægjunnar á sér ýmis birtingarform. Stundum er það...

13. Mars 2004

Um unglingadrykkju

Blessaður.
Þetta er fínt innleg hjá Guðrúnu (sjá les.bréf 10/3). Hins vegar er unglingadrykkja þ.e.a.s hve oft unglingar "detta í það " að aukast hvernig sem á  það er litið og því ekki um tegundabreytingu að ræða . Breytingin er  sú að...
Kveðjur Árni

13. Mars 2004

Breisk en bókelsk þjóð

Að undanförnu hafa menn nokkuð velt fyrir þeirri ákvörðun forsætisráðherra að láta rita sögu forsætisráherra landsins fram á þennan dag og gefa bókina út 15. september þann dag sem Davíð Oddsson stendur upp fyrir Halldóri Ásgrímssyni. Í frjálsum pennum hér á síðunni fjallar Kristján Hreinsson skáld um valdabrölt í Stjórnarráði Íslands á ómyrkan hátt...

11. Mars 2004

Fróðleikur um sögu kostnaðarvitundar

Í mjög athyglisverði grein hér á síðunni eftir Þorleif Óskarsson er fjallað um áróður Verslunarráðs Íslands fyrir kostnaðarvitund í heilbrigðiskerfinu. Greinin ber heitið, Hann komst aldrei til kostnaðarvitundar. Þar segir...

10. Mars 2004

Af magni, gæðum og talandi skáldum

Einmitt þá opnast gáttir himinsins með ofsaroki og rigningu. Ég orðaði það við Kristján Hreinsson, skáld að mjög þætti mér þetta miður. Kristján sagði að ég skyldi taka gleði mína að nýju, "Það má kannski kvarta undan gæðum veðursins en magnið svíkur ekki," sagði Kristján. Hann bætti síðan við að bragði...

10. Mars 2004

Unglingar drekka ekki meira - þeir drekka annað

Ég er einfaldlega að vekja athygli á því að þróunin hafi ekki að öllu leyti verið eins slæm og þið Árni gefið til kynna. Alla vega held ég að fáir deili um að betra er að unglingar drekki bjór heldur en landa....
Guðrún

10. Mars 2004

Þorleifur Óskarsson skrifar: Hann komst aldrei til kostnaðarvitundar

Verslunarráð Íslands hefur að undanförnu sýnt snarpa tilburði til vitundarvakningar meðal sjúklinga um allan kostnaðinn sem af þeim hlýst og samfélagið þarf að borga. Vakningin felst í því að rækta með sjúklingum hina göfugu kostnaðarvitund. Dugir þá lítt að mati ráðsins að upplýsa þá með einhverjum saklausum kostnaðaryfirlitum eða málamyndareikningum. Eina leiðin ...

7. Mars 2004

Með Ástarþökk frá Agli – og síðan Birni

Það vakti nokkra athygli þegar Egill Helgason fjölmiðlamaður með meiru, kvaddi þá félaga í frjálshyggjunni,  Hannes Hólmstein og Jón Steinar Gunnlaugsson í þætti sínum "Silfri Egils" fyrir stuttu með þeim hjartnæmu orðum að hann kynni þeim  "ástarþakkir fyrir komuna" og vonaðist til að sjá þá hið allra fyrsta að nýju. Það eru fleiri ástfangnir en Egill Helgason. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fellur í stafi og einnig Morgunblaðið í dag, sunnudag sem...

7. Mars 2004

Villandi umræða um lífeyrismál

Enda þótt allar þær tölur sem fram hafa komið að undanförnu hafi legið fyrir sem áður segir, er hitt óneitanlega nokkur nýlunda að þær séu settar fram með þeim hætti sem framkvæmdastjóri ASÍ gerir. Hann tínir fyrst til ...

7. Mars 2004

Heimahjúkrun í höfn

Þessi deila sýndi mér hve samstæður og kröftugur hópur átti í hlut. Samfélaginu er það mikið hagsmunamál að missa ekki af þessu fólki til annarra starfa eins og leit út um skeið að gæti gerst. Ef ég ætti að nefna einhver störf sem verðskulduðu góð kjör þá eru það nákvæmlega ...

5. Mars 2004

Samtök starfsmanna í almannaþjónustu bera saman bækur sínar


Frá fundi forsvarsmanna norrænna samtaka launafólks í húsakynnum BSRB

Forsvarsmenn samtaka launafólks í almannaþjónustu komu saman til fundar í Reykjavík í vikunni til árlegs samráðsfundar síns. Um er að ræða öll stærstu heildarsamtök á þessu sviði og eru þau sambærileg að uppbyggingu og BSRB er hér á landi.

5. Mars 2004

Það margborgar sig að skera niður í menntakerfinu!

Um leið og ég þakka félaga Þjóðólfi athyglisverðan pistil um hægðakenningu Guðna Ágústssonar, en hún gengur út á það að góðar hægðir séu betri en miklar gáfur, vil ég benda mínum kæra vini á mikilvægt atriði sem mér sýnist að honum hafi algerlega sést yfir. Það er sú staðreynd að...
Jón frá Bisnesi

5. Mars 2004

Hvers vegna kærir enginn?

Sæll, Ögmundur.
Ég er alveg sammála þeim sem vilja allar bjórauglýsingar burtu úr sjónvarpi og blöðum. Hitt gegnir furðu að enginn stjórnmálamaður sem nú er á þingi skuli hafa beitt sér gegn því að eimingartæki og efni tíl vín- og ölgerðar skuli vera til sölu í ýmsum verzlunum. Bannað er að...
Sigurður Þór Bjarnason

4. Mars 2004

bsrb.is fjallar um heimahjúkrun

Í kjaradeilu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn starfsfólki heimahjúkrunar, er nú beðið í ofvæni eftir því að ríkisstjórinin grípi í taumana og komi í veg fyrir frekari erfiðleika hjá því fólki sem þarf að reiða sig á heimajúkrun. Yfirstjórn heimahjúkrunar virðist vera í eins konar afneitun og ...

2. Mars 2004

"Æskilegt að Síminn verði að einhverju leyti í eigu Íslendinga"

Birtist í Fréttablaðinu 01.03.04
Við erum held ég nokkuð mörg úti í þjóðfélaginu sem kunnum ráð við þessu. Fyrir það fyrsta átti aldrei að gera Póst og síma, þessa ágætu þjónustustofnun að vöru á markaði, eins og núverandi stjórnendur skilgreina hana. Hitt er svo einnig til umhugsunar hvort yfirleitt eigi að stilla "vörunni" út í söluglugga. Er það með öllu illt að þjóðin fái áfram að njóta þess milljarða arðs sem kemur  frá Landssíma Íslands?...

2. Mars 2004

Hægða- og gáfnafarsrannsóknir Guðna Ágústssonar

Enn og aftur hefur það sannast að góðir hlutir gerast hægt eins og segir í kjörorði Samtaka áhugafólks um hvers kyns hægðatregðu. Afreksmaðurinn Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, opinberaði nú nýverið afraksturinn af áratugalöngum rannsóknum sínum á sviði hægða- og gáfnafars. Niðurstaða Guðna er í stuttu máli sú að ..
Þjóðólfur

2. Mars 2004

Tívolí á fjöllum

Einu sinni keypti ég mig inn á foss í Wales. Þetta var ný upplifun fyrir Íslending. Ekki var aðgangseyririnn hár og ekki sá ég eftir peningunum. En ég man að þetta hafði áhrif á upplifun mína á því sem bar fyrir sjónir. Mér fannst fossinn hálfómerkilegur, eiginlega fannst mér þetta vera platfoss. Ef ég hefði gengið fram á þennan foss...

1. Mars 2004

BSRB með upplýsingar og afstöðu í deilunni um heimahjúkrun

Þjóðin fylgist nú agndofa með tilraunum Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu að keyra í gegn breytingar á starfsfyrirkomulagi sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga, sem felur í sér stórfellda kjaraskerðingu þvert á samkomulag sem hefur verið í gildi allar götur frá 1990, undirritað af hálfu BSRB fyrir hönd starfsmanna. Þessu samkomulagi hefur aldrei verið sagt upp og er ljóst að þessi deila leysist ekki fyrr en ...

1. Mars 2004

Björn og herinn

Dómsmálaráðherra núverandi hefur lengi verið mikill áhugamaður um að fá íslenskan her. Væntanlega vel borðalagðan, á gljáfægðum stígvélum og að sjálfsögðu með ráðherera málaflokksins í reglulegri liðskönnun með hönör. Áhugi Björns Bjarnasonar á hervæðingu Íslands vaknaði löngu áður en hryðjuverkaótti komst í hámæli í heiminum. Sá ótti hefur orðið...

26. Febrúar 2004

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Febrúarpistill frá Bandaríkjunum

Hver er áhrifamesti einstaklingurinn í heiminum í dag? Það má sannarlega halda því fram að það sé Ayatollah Ali Sistani, helsti leiðtogi Sjíita í Írak. Eins og sakir standa hefur hann lykilinn að því hvort stjórnmálaþróun Íraks verði friðsæl og samkvæmt áætlun Bandaríkjanna eða hvort aðrir þættir koma til með að flækja stöðuna. Þar af leiðandi gætu hugmyndir hans og aðgerðir (eða aðgerðaleysi) haft töluverð áhrif ekki bara á stöðuna í Írak og Mið-Austurlöndum almennt séð heldur einnig á framþróun forsetakosninganna í Bandaríkjunum.

26. Febrúar 2004

Tvær ábendingar Magnúsar Þorkels

Í athyglisverðum pistli, sem birtist í dag hér á vefsíðunni eftir Magnús Þorkel Bernharðsson, koma fram ýmsar skarpar athugasemdir. Mig langar til að vekja athygli á tveimur...

25. Febrúar 2004

Fjármálaráðherra vill gerast jólasveinn

Á Pressukvöldi Sjónvarps í kvöld sat Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, fyrir svörum. Margt jákvætt kvað Geir vera nú í stöðunni. Til dæmis væri lítil þensla. Því væri að þakka að fleiri útlendingar væru að störfum í Kárarahnjúkum en búist hafði verið við. Landsmenn hlýtur að hafa sett hljóða við þessa yfirlýsingu. Því hafði nefnilega....

24. Febrúar 2004

Kostnaðarvitund

Og nánast daglega varð maður vitni að kraftaverkum, stundum ekki stórum á almennan mælikvarða, en á svona stað er hvert skref hvað smátt sem það er risavaxið.  Og einlæg gleði fólksins við hverja smá framför var ómetanleg.  Ég man að maður nokkur sagði "Nú veit ég í hvað skattarnir mínir fara, og ég sé ekki eftir þeim."
Ætli það sé ekki tilfellið.  Það er hægt að gaspra um hlutina af algeru þekkingarleysi en þegar menn svo reyna þá á eigin skinni...
grj

24. Febrúar 2004

Þegar kostnaðarvitundin brennur á eigin skinni

Verslunarráð Íslands hefur verið að tjá sig að undanförnu um mikilvægi þess að örva kostnaðarvitund í heilbrigðiskerfinu. Með þessu móti sé hægt að hafa áhrif á eftirspurnina og liggur þá í hlutarins eðli að kostnaðarvitundinni þurfi að fylgja notendagjöld. Vitundinn þarf með öðrum orðum að ná niður í pyngju sjúkilngsins. Eða með orðalagi ...

24. Febrúar 2004

Um Stofnsáttmála SÞ

Sæll Ögmundur.
Alltaf áhugavert að lesa síðuna þína. Annars vantar mig upplýsingar sem mér dettur í hug að þú getir hjálpað mér með. Er hægt að nálgast Stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna á íslensku einhversstaðar? Ég finn...
Sigurður Hólm

23. Febrúar 2004

Nýtt Fréttabréf BSRB

Út er komið nýtt fréttabréf BSRB en samtökin tóku upp þann sið fyrir allnokkru síðan að senda reglulega frá sér slík bréf. Kennir margra grasa og liggur mikil vinna að baki mörgu sem þarna birtist. Í þessu fréttabréfi er fjallað um þau mál sem efst eru á baugi, svo sem deiluna um heimahjúkrun, sameiningu nokkurra stéttarfélaga innan BSRB í nýtt félag, Kjöl; afstöðu BSRB og ASÍ í raforkumálum, rýnt er í hvað búi að baki OECD tölunum í heilbrigðismálum, sagt frá margvíslegri ...

22. Febrúar 2004

Sniðugt hjá Íslendingum

Bankarnir birta uppgjör sín fyrir síðasta ár um þessar mundir og kemur í ljós að það er alls ekki svo slæmur bisniss að reka banka nú á dögum. Þetta kemur auðvitað ekki á óvart, enda segir kostnaðarvitund almúgans að bankar taki vel fyrir hverja þá þjónustu sem þeir veita. Að sönnu staðhæfir Verslunarráðið að þeir taki lægri þjónustugjöld en bankar í grannlöndunum, en svo ótrúlega sem það kann að hljóma eru ...
Þrándur

22. Febrúar 2004

Er eitt að haganst annað að eignast?

Þjóðin er að verða hálf dofin yfir stöðugum fréttum af milljarðagróða nokkurra einstaklinga og hópa og væri ráð að öflugir fjölmiðlamenn kortelgðu alla alla þessa fjármuni og skýrðu það út hver sé að hagnast og hver sé að tapa. Á þessum málum eru að sjálfsögðu margar hliðar og í lesendadálkinum á síðunni í dag veltir Þrándur fyrir sér ýmsum athyglisverðum þáttum, m.a. muninum á því hvernig "skatturinn" fer með launamanninn annars vegar ...

22. Febrúar 2004

"Þekktur Íslendingur" fundinn

Fyrir nokkrum dögum efndi einn lesandi síðunnar til eins konar getraunar. Hann birti skrif einstaklings, sem hann kvað vera "þekktan Íslending" og bað menn geta sér til um hver það væri. Í skrifunum var gerð samlíking á milli mjólkurkaupa annars vegar og sölu ríkisbankanna fins vegar. Þótti "þekktum Íslendingi" enginn munur á þessu tvennu...

22. Febrúar 2004

Síðbúnar áhyggjur Ingibjargar Sólrúnar og Björns Bjarnasonar

Sumir fjölmiðlar hafa slegið upp sem stórfréttum nú síðustu daga, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og varaþingmaður Samfylkingarinnar, telji að Íslendingar hafi hlaupið á sig með því að sækja ekki um undanþágu frá raforkutilskipun Evrópusambandsins. Ingibjörg Sólrún kveikir á þessu árinu á eftir öðrum borgarstjórnmálamanni Birni Bjaransyni, dómsmálaráðherra og borgarstjórnarmanni en það var einnig uppsláttarfrétt á sínum tíma þegar Björn vaknaði um síðir til vitundar um klaufagang ríkisstjórnarinnar í þessu ...

21. Febrúar 2004

Um ómeðvitaða pólitíkusa og vímuefnavarnir

Sæll meistari Ögmundur
Á ágætum vef þínum skrifar þú um málefnalegt innlegg Þorleifs Gunnlaugssonar í umræðu um vímuefnameðferð.
"En að lokum þetta að sinni: Þeir aðilar sem eru faglegir og vinna markvisst og hafa auk þess sannað sig, þurfa ekki að óttast rækilega úttekt og umræðu um þennan geira heilbrigðisþjónustunnar eins og lagt er til í umræddri þingsályktunartillögu."
Þetta er ekki rétt Ögmundur. Það eru einmitt þeir sem eru faglegir og vinna markvisst sem óttast "rækilega úttekt og umræðu" pólitíkusa sem hlaupa með mál inn á Alþingi Íslendinga, alls ómeðvitaðir um ...
Arnþór Jónsson

20. Febrúar 2004

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: Þingflokkur VG á villigötum í vímuefnamálum

Heill og sæll félagi Ögmundur! Oftar en ekki er ég þér sammála í þjóðmálaumræðunni. En undantekningin sannar regluna og hvað þig varðar fann ég þá undanteknigu í þingmáli ykkar Þuríðar Backman um úrræði fyrir áfengis og vímuefnaneytendur. Reyndar er ég svo ósammála ykkur að ég...

20. Febrúar 2004

Þingmál um vímuefnavarnir gagnrýnt

Í yfirgripsmikilli grein sem Þorleifur Gunnlaugsson skrifar í dálkinn frjálsir pennar hér á síðunni í dag kemur fram hörð gagnrýni á þingsályktunartillögu sem ég flyt ásamt Þuríði Backman um úrræði fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur. Tillagan er ...

19. Febrúar 2004

Vill Verslunarráðið innræta krabbameinssjúklingum kostnaðarvitund?

Birtist í Morgunblaðinu 18.02.04
En ef svo skyldi vera að Verslunarráðið hafi ekki haft krabbameinssjúklinga sérstaklega í huga, við hverja var þá átt? MS sjúklinga, sykursjúka, ofnæmissjúklinga, flogaveika, heilaskaddaða, hjartveika, langveik börn eða fólk sem þjáist af gláku? Auðvitað er Verslunarráð Íslands að tala til ...

19. Febrúar 2004

Verslunarráð Íslands nær árangri

Birtist í Fréttablaðinu 18.02.04
Fyrir fáeinum dögum efndi Verslunarráð Íslands til fundar með fréttamönnum og var tilefnið að kynna stefnu samtakanna  í heilbrigðismálum. Í stuttu máli gengur þessi stefna út á að ...

19. Febrúar 2004

Hver er höfundurinn?

Eftirfarandi snilldartexti, leiftrandi af djúpri hugsun, og sem ég afmarka með gæsalöppum svo ég lendi ekki á  Kvíabryggju fyrir hugverkastuld, er eftir þekktan Íslending...
Jón frá Bisnesi  

19. Febrúar 2004

Hvenær skyldi Kalda stríðinu ljúka á Íslandi?

Í fréttum í kvöld var einnig rætt við Leo Michel, sérfræðing í varnarmálum hjá Institute of National Strategic Studies í Washington D.C. Hann flutti okkur þær fréttir að Kalda stríðinu væri lokið og var á honum að skilja að loftárásir á Ísland væru ekki yfrirvofandi. Því miður hafði ekki  verið gengið eftir því við Halldór Ásgrímsson að...

19. Febrúar 2004

Lesandi efnir til getraunar

Jón frá Bisnesi, skrifar lesendadálki síðunnar áhugavert bréf í dag þar sem hann birtir orðréttan texta, sem hann hefur eftir "þekktum Íslendingi"og hvetur lesendur til eða geta sér til um hver skrifi. Í skrifunum er vikið lítillega að ...

18. Febrúar 2004

Hvers vegna kærir ekki Mörður?

All undarleg umræða fór fram á Alþingi í dag. Mörður Árnason alþingismaður spurði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hvað ráðuneytið ætlaði að aðhafast vegna brota á lögum um áfengisauglýsingar. Mörður kvað ýmsa á því máli að breyta bæri lögum um bann við áfengisauglýsingum. Ástæða væri til að taka þá umræðu og leiða hana til lykta. Staðreyndin væri hins vegar sú...

17. Febrúar 2004

Pétur Guðjónsson skrifar frá Haiti: Herferð fyrir samfélag án ofbeldis

Kerfið sem við lifum við um allan heim byggir á réttlætingu ofbeldis. Vegna þessarar réttlætingar eiga fáir mikið og fjöldinn ekkert, þessvegna er allur þessi ójöfnuður hvað
varðar tækifæri, skort á menntun, heilbrigði, mannsæmandi lífsafkomu og vinnu og líka virðingarleysi gagnvart mannverunni. Að taka þátt í aðgerðum sem byggjast á ofbeldi er að styðja þetta kerfi sem mjög fáum líkar við...

17. Febrúar 2004

Íslenskir Húmanistar á Haiti

Pétur Guðjónsson hefur látið mikið að sér kveða á vettvangi Húmanistahreyfingarinnar um langt árabil, ekki síst í Rómönsku Ameríku en þeir sem komnir eru um miðjan aldur minnast án efa frægrar uppákomu þegar Pétur, þá ungur námsmaður, lenti í orðaskiptum við Kastró Kúbuforseta, sem í kjölfarið bauð Pétri...

16. Febrúar 2004

Leyndarmál Guðjóns Ólafs Jónssonar

Í dag fóru fram utandagskrárumræður á Alþingi um skort á skattskilum Impregilo og undirverktaka við Kárahnjúka. Steingímur J. Sigfússon hóf umræðuna fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs en Geir H. Haarde, fjármálaráðherra var til svara. Reyndar var hann ekki einn um að vilja svara. Varaþingmaður Framsóknarflokksins Guðjón Ólafur Jónsson vakti athygli...

15. Febrúar 2004

Fjöldamorðingjar sameina krafta sína

Á öldum ljósvakans er iðulega boðið upp á prýðisgott efni. Með fullri virðingu fyrir öðrum fjölmiðlum hefur Ríkisútvarpið þar mikla yfirburði. Ekki stendur RÚV sig þó alltaf í stykkinu. Oft fer því meira að segja mjög fjarri. Ég velti því stundum fyrir mér hvort þeir Sjónvarpsmenn geri sér alltaf grein fyrir...

14. Febrúar 2004

Jón Steinar Gunnlaugsson árettar sjónarmið sín

Það sem eigendur stofnfjár voru að selja var stofnfé ásamt þeim aðildum að sparisjóði, m.a. við breytingu í hlutafélag, sem því fylgir samkvæmt lögum. Ef einhver vill kaupa þetta á hærra verði en nafnverði stofnfjár kemur engum öðrum það við. Einungis þarf að gæta þess, að...
Jón Steinar

14. Febrúar 2004

Rætt um árangur í Reykjavík

Það var lofsvert framtak af Reykjavíkurfélagi VG að efna til þessa fundar. Það er ljóst að mörg verkefni bíða R-listans og vissulega fannst mörgum fundarmönnum of hægt ganga í ýmsum efnum. En jafnframt urðu þeir margs vísari um það mikla og lofsverða starf sem fulltrúar VG vinna í borginni og þann árangur sem þeir hafa náð í starfi sínu. Þegar...

14. Febrúar 2004

Bankarnir hafi samráð

Björfgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, birtist á skjánum í fréttatíma Ríkissjónvarpsins í kvöld talsvert ábyrgðarfullur á svip. Umræðuefnið var lækkun vaxta. Björgólfur kvaðst eygja leið til að ná þessu markmiði. Ég held að flestir hafi búist við því að lausnarorðið væri...

13. Febrúar 2004

Íslendingar vilja borga fyrir góða heilbrigðisþjónustu

Birtist í Fréttablaðinu 11.02.04
Viltu borga fyrir heilbrigðisþjónustuna með sköttum á meðan þú ert heilbrigður eða viltu bíða og borga úr eigin vasa þegar þú ert orðinn veikur? Það hefur margoft sýnt sig að meirihluti Íslendinga vill borga á meðan hann er frískur...

13. Febrúar 2004

Íslenskir bjórframleiðendur grafa undan lögum

Árni Guðmudsson benti á það í fyrrnefndum sjónvarpsþætti að kannanir sýndu að bjórauglýsingarnar að undanförnu væru farnar að skila sér í aukinni bjórdrykkju unglinga. Hann sagði að siðferðilegt markmið laga um þessi efni væru alveg skýr: Að koma í veg fyrir áfengisauglýsingar. Ég tek heilshugar undir með honum og hvet alla til að sniðganga þá framleiðendur sem grafa undan landslögum með því að skáskjóta sér framhjá þeim...

13. Febrúar 2004

Kostnaður við samkeppnina er milljarður

Nú eru menn farnir að óskapast yfir því að raforkuverð komi til með að hækka í Reykjavík vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga í raforkugeiranum. Þessu er nú slegið upp á baksíðu Morgunblaðsins. Þetta gæti gerst vegna jöfnunar raforkuverðs á landinu öllu. Minna hefur farið fyrir hinu, hvað hugsanleg markaðsvæðing raforkugeirans komi til með að kosta...

12. Febrúar 2004

Mér finnst Svavarsvæðingin góð

Svavar Gestsson fyrrverandi alþingismaður var einhver duglegasti og ódeigasti baráttumaður í hreyfingu sósíalista um árabil. Svavar hamaðist í pólitík lengur en flestir hafa gert og sér víða stað verka hans. Löngum þótti mér mikið til Svavars koma sem stjórnmálamanns og saknaði þess þegar hann hvarf af vettvangi stjórnmálanna, mér liggur við að segja fyrir aldur fram. Í Féttablaðinu í gær er því slegið upp að...

12. Febrúar 2004

Fögnuður Davíðs

Frá barnæsku hefur maður litið á Hannes Hafstein sem mikið skáld og glæsilegan forystumann.  Með þessum leikskólaaðferðum var skugga varpað á þá mynd.  Ég vona samt að Hannes (Hafstein á ég við) standi þetta hret af sér en það sama verður varla sagt um þá sem mögnuðu upp gerningaveðrið...
grj

11. Febrúar 2004

Jón Steinar og sálfræðingarnir

Í Morgunblaðinu í dag beinir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður spjótum sínum að Páli Vilhjálmssyni blaðamanni. Hann hafði staðhæft að sparisjóðafrumvarpið svokallaða hefði "komið í veg fyrir að stofnfjáreigendur gætu höndlað með eigin fé sparisjóðanna sem sitt eigið...".

8. Febrúar 2004

Hvers vegna spyrja þeir ekki Halldór?

Heldur er nú dapurlegt að fylgjast með þeim félögum, Bush Bandaríkjaforseta og Blair forsætisráðherra Bretlands, svara fyrir óvandaðan málflutnig til að réttlæta árásina á Írak  síðstliðið vor. Nú er komið á daginn að fullyrðingar þeirra um gereyðingavopnabirgðir Íraka reyndust meira og minna út í loftið. Hans Blix fyrrum stjórnandi vopnaleitar Sameinuðu þjóðanna í Írak sagði...

8. Febrúar 2004

Jón Torfason skrifar: Á móti

Já vinstri grænir eru á móti mörgu. En Vinstri grænir móta heldur ekki stefnu sína eftir skoðanakönnunum. Þeir hafa skýra hugsjón um réttlæti, jöfnuð og bræðralag allra manna. Þeir vilja að Ísland verði herlaust land þaðan sem aldrei verður farið með rangsleitni gegn öðrum þjóðum...

7. Febrúar 2004

Hvað ef Hannes hefði verið ófríður væskill og kjarklaus kveif?

Á 100 ára afmæli heimastjórnar er mikið gert með Hannes Hafstein, fyrsta íslenska ráðherrann, og það svo að jaðrar við persónudýrkun. Allt er þetta svo sem í takt við strauma samtímans þar sem hjákátleg dýrkun á fáeinum einstaklingum og framtaki þeirra er alls ráðandi en framlag almennings og þjóðarinnar er lítils metið. En hvað ef Hannes hefði nú ekki verið glæsimenni og stórskáld – hvað ef hann hefði verið...
Þjóðólfur

7. Febrúar 2004

Hvers vegna sparisjóðalögin voru nauðsynleg

Fjórir þingmenn tjá skoðun sína á "sparisjóðamálinu" í Fréttablaðinu í dag: Pétur H. Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Helgi Hjörvar. Andstaða Péturs H. Blöndals er flestum kunn og að sjálfsögðu einnig framganga...

6. Febrúar 2004

SA, almannaþjónustan og opinberir starfsmenn

Ég ætla einnig að láta liggja á milli hluta hvernig SA virðist hafa hrapað að niðurstöðu varðandi fjölgun opinberra starfsmanna en í Vefriti fjármálaráðuneytisins eru fullyrðingar SA hvað þetta snertir hraktar. Ekki hef ég orðið var við að fjölmiðlar sýndu þessum leiðréttingum sama áhuga og röngum fullyrðingum SA á sínum tíma. Um þetta má lesa nánar á vefsíðu BSRB
Víkjum stuttlega að þremur þemum í þessari umræðu....

5. Febrúar 2004

Hvað vakir fyrir Kaupfélagi Skagfirðinga?

Í dag gerist það síðan að kaupfélagsstjórinn í Skagafirði, Þórólfur Gíslason, sendir inn á borð Efnahags- og viðskiptanefndar erindi með ósk um að lögum verði breytt á þann veg að 5% reglan verði hreinlega numin brott. Í röksemdafærslu kaupfélagsstjórans segir m.a. um núverandi aðstæður:...

4. Febrúar 2004

Jón Kristjánsson skipar bráðanefnd

Hvernig fara menn að því í Stjórnarráði Íslands að réttlæta það fyrir sjálfum sér að grípa til ráðstafana sem valda eyðileggingu og koma síðan fram í fjölmiðlum og skýra frá því að skipuð hafi verið nefnd, sem eigi að gera tillögur um hvernig bæta megi skaðann? Ég hef grun um að sökudólgurinn í þessu máli sé ekki núverandi heilbrigðisráðherra. Mín tilfinning er sú...

2. Febrúar 2004

Framsókn og tjáningarfrelsið

Ég var alveg hjartanlega sammála áherslum þínum í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sl. laugardag þar sem þú gladdist yfir því ef samruninn á fjölmiðlamarkaði yrði til að styrkja fjárhagsgrundvöll markaðs- ljósvakamiðlanna. Það er hins vegar hárrétt eins og þú bentir á að til að koma í veg fyrir algera einokun á fjölmiðlamarkaði sem væri raunveruleg hætta, þá yrði að...
Hafsteinn Orri

2. Febrúar 2004

Ekki meira klúður – nú þarf árangur

Í fréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld sagði að þingflokkar Samfylkingar og  Sjálfstæðisflokks hefðu í dag  samþykkt frumvarp, sem þessir flokkar telja vera til málamiðlunar á milli þeirra sem ekkert vilja gera og hinna sem helst kysu að gengið yrði hreint til verks í SPRON-málinu. Athygli vakti að ekki var fréttatími Sjónvarps liðinn fyrr en forsætisráðherra hafði hringt og lýst því að...

1. Febrúar 2004

Fjölmiðlar verða að vera stöndugir

Þarna eru mikilvægir fjölmiðlar að sameinast og að því leyti sem þetta kemur til með að styrkja rekstur þeirra er þessi breyting jákvæð og til góðs. Það er óhemju dýrt að reka góða vandaða fjölmiðla og það er mikilvægt að fjölmiðlar hafi mjög styrkar fjárhagslegar stoðir svo þeir geti framleitt gæðaefni. Nú er okkur sagt að rekstri þessara fyrirtækja verði haldið aðgreindum þannig að óljóst er að hvaða...

30. Janúar 2004

Tekið ofan fyrir Árna í Hafnarfirði

Sem betur fer er til á Íslandi fólk sem á í skrokknum á sér blóð sem rennur; fólk sem hefur ábyrgðartilfinningu og  fylgir henni eftir. Slíkur maður er Árni Guðmundsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi í Hafnarfirði. Hann hefur kært vesaldóminn í Ölgerð Egils Skallagrímssonar fyrir  að ríða á vaðið til að reyna að hnekkja félagslegri viðleitni þjóðarinnar til að berjast gegn áfengisvánni með því að sporna gegn áfengisauglýsingum...

30. Janúar 2004

Færir Landsbankinn okkur EM í handbolta?

Óskandi væri að Ríkisútvarpið endurskoðaði afstöðu sína til kostunar dagskrárliða. Auglýsingar eiga að heita auglýsingar og birtast undir þeim formerkjum í auglýsingatímum sjónvarps og útvarps. Kostun heitir það hins vegar þegar auglýsandanum er leyft að líma sig við einstaka dagskrárliði með yfirlýsingum um að viðkomandi dagskrá sé þeim að þakka: Í kvöld var okkur sagt að ...

29. Janúar 2004

Atvinnuleysi og örorkubætur

Birtist í Fréttablaðinu 28.01.2004
Allt var þetta fyrirsjáanlegt þegar ákvörðun var tekin um stóriðjframkvæmdirnar við Kárahnjúka fyrir rúmu ári. Það sem ekki var fyrirsjáanlegt var að fyrstu fórnarlömdin yrðu hjúkrunarfólk á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og blórabögglar síðan fólk með skerta starfsorku sem ekki á annars kost en fá stuðning úr almannatryggingakerfinu...

28. Janúar 2004

Það er hægt að afskrifa hlutabréf en ekki þjóðina

Á þessa leið mælti Haraldur Steinþórsson, talsmaður Félags hjartasjúklinga á baráttufundi í Austurbæ í gær. Þessi gamli baráttujaxl, fyrrverandi varaformaður BSRB til margra ára, vandaði ríkisstjórninni ekki kveðjurnar í frábærri tölu sinni á fundinum en honum  var stefnt gegn niðurskurði ríkisstjórnarinnar á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi. Haraldur sagði að þjóðin  stæði einhuga að baki heilbrigðisþjónustunni, það hefði margoft sýnt sig. Hin fjölmennu samtök sjúklinga í landinu hefðu einnig sýnt í verki samstöðu um að stuðla að uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar. Ríkisstjórnin gengi nú gegn þjóðarviljanum og mætti segja með sanni að með aðgerðum sínum væri hún að innleiða dauðarefsingu...

26. Janúar 2004

Hver má tala um SPRON?

Nú er komið á daginn að ekki verður hægt að ná saman fundi í Efnahags- og viðskiptanefnd þingsins um málefni sparisjóðanna  fyrir þingbyrjun vegna deilna um hver sé hæfur og hver vanhæfur til að fjalla um málið. Í hnotskurn snýst málið um að formaður nefndarinnar Pétur H. Blöndal er sjálfur...

24. Janúar 2004

Mörður spígsporar um á bananahýði

Í Morgunblaðinu í gær er fjallað um fund sem Samfylkingin efndi til í umboði Alþýðuflokks Reykjavíkur (sem ég hélt að hefði verið lagður til hvílu) um "eftirlaunafrumvarpið" margfræga þar sem Alþingi festi í lög umframréttiindi ráðherrum til handa sérstaklega og þingmönnum almennt einnig. Enginn í þingflokki VG studdi þetta frumvarp þegar það var afgreitt sem lög. Það  verður hins vegar ekki sagt um þingflokk Samfylkingarinnar. Þar studdu...

23. Janúar 2004

Fjallað um World Social Forum

Nýlokið er í Indlandi World Social Forum.  Einar Ólafsson rithöfundur fjallar um þessa samkomu á heimasíðu sinni og er ástæða til að vekja athygli á umfjöllun hans og reyndar einnig heimsíðu Einars sem er einkar athygliverð. Netslóðina er að finna hér að neðan. Einar Ólafsson segir þar meðal annars um World Social forum:  "Þessi ráðstefna er raunar engin ein ráðstefna heldur mörg hundruð ráðstefnur, fundir og samkomur til að ræða þann vanda sem...

18. Janúar 2004

Skemmtilegt viðtal og nokkrir þankar í framhaldi

Sá sem mælir er breski rithöfundurinn John Mortimer í skemmtilegu viðtali sem Jónas Knútsson tók við hann og birtist í helgarblaði Morgunblaðsins. Viðtalið vakti athygli mína af tveimur sökum. Það gefur skemmtilega innsýn í hugarheim þessa aldraða og lífsreynda Breta. Að hinu leytinu er viðtalið skemmtilegt og fjörugt og er það að sjálfsögðu Mortimer að þakka en ekki spilla stórskemmtilegar – stundum svolítið ögrandi – spurningar Jónasar Knútssonar. Varðandi ummæli Mortimers um Tony Blair þá...

17. Janúar 2004

Bókhaldið hjá Pétri Blöndal

Pétur Blöndal segir í fjölmiðlum að hagnaður sinn af sölu SPRON myndi verða um tvær milljónir. Það séu ekki peningar sem ríði neinn baggamun í sínu bókhaldi og það væri þá staðfesting á hæfni hans til að fjalla um og jafnvel að stjórna umfjöllun í þingnefnd  um tilgreint mál á grundvelli málefnis en ekki hagsmuna. Hann bætir við að allar ákvarðanir á Alþingi varði einhvern, hagsmunatengsl séu alltaf einhver. Þjóðarmeinsemdin sé...
bjarni

16. Janúar 2004

Óstöðvandi landnám athafnaskáldanna

Höft og helsi koma að sjálfsögðu við kvikuna á öllum ærlegum skáldum; því hvaða andans jöfur er svo aumur að hann vilji ekki fá frið til að skapa og koma svo verkum sínum á framfæri? Í þessum kringumstæðum hefur Jón í Baugsnesi nú þegar ort sitt fyrsta lagafrumvarp, eins og frá var sagt í ...
Eiríkur frá Hannesi

16. Janúar 2004

Skin og skúrir hjá Framsókn

Hjá framsóknarmönnum skiptast á skin og skúrir. Tveir mjög hamingjusamir framsóknarmenn hafa birst á sjónvarpsskjánum á undanförnum dögum. Annar er formaður flokksins, Halldór Ásgrímsson, sem sagðist vera "stoltur og glaður" yfir efnasprengjufundi í Írak, enda "hefði hann alltaf vitað" að gereyðingarvopn væri að finna í landinu. Hinn hamingjusami framsóknarmaðurinn er Jónína Bjartmarz. Ég sá ekki betur en ráðherraglampi væri í augum hennar...

15. Janúar 2004

Heildarsamtök að baki trúnaðarmönnum á Landspítala háskólasjúkrahúsi


Fulltrúar stærstu heildarsamtaka launafólks í landinu komu á fund trúnaðarmanna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í dag til að mótmæla stórfelldum niðurskurði á sjúkrahúsinu, sem mun verða þess valdandi að hátt í 300 einstaklingar munu missa vinnuna. Niðurskurðurinn mun skerða þjónustu verulega. Einar Oddsson, formaður Starfsmannaráðs LSH stýrði fundinum en...

15. Janúar 2004

Lífeyrissjóðirnir stofni banka

Þetta er mikill fákeppnismarkaður þar sem lífeyrissjóðirnir eru alltof stórir og virka bara sem  hækja örfárra ákafamenn sem falið er vald sem engum er hollt . Víst er að skylda lífeyrissjóðanna að fjárfesta hlutfall tekna sinna á íslenskum hlutabréfamarkaði er að verða þjóðarmeinsemd því að í skjóli þess þrífst mikil spilling sem birtist í ofmetnum fyrirtækjum á mjög vanþróuðum hlutabréfamarkaði. Glaðst hefur verið yfir góðri ávöxtun lífeyrissjóðanna ...
Bjarni

13. Janúar 2004

Gargandi snilld Hannesar eða barasta rugl?

Ögmundur Jónasson vekur hér á síðu sinni athygli á djúpgrunduðum vangaveltum Hannesar G. Sigurðssonar aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þess efnis m.a., að fjölgun opinberra starfsmanna dragi óhjákvæmilega úr hagvexti. En eins og Ögmundur sýnir fram á stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi Hannesar enda verður ekki betur séð en aðstoðarforstjórinn sé að minnsta kosti...
Þjóðólfur

12. Janúar 2004

Jón Torfason og Sigríður Kristinsdóttir skrifa: Almannafé

Það koma út margar bækur ár hvert, góðu heilli. Sumar eru læsilegar, aðrar miður eins og gengur. Margir nota frístundirnar til samningar slíkra verka, aðrir gera það í vinnutímanum á kostnað almennings. Höfundur umræddrar bókar um Halldór Laxnes hefur sagt að hann hafi ritað bókina á einu og hálfu ári, vonandi í starfsleyfi. Miðað við þessi afköst mun hann líklega...

11. Janúar 2004

Endurmenntun í passíusálmunum

Og mikið mundi það nú létta byrðarnar á baki forsætisráðherrans ef ýmsir helstu viðskiptajöfrar landsins tækju þessu tilboði Háskólans. Námskeiðið kostar að vísu 16.100 krónur pr. mann en gæti...
Jón Bisness

11. Janúar 2004

Heimsatburðir að hætti Halldórs eða Sunday Herald?

Það var hins vegar ekki í þessu samhengi sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráherra Íslands brást við þessum vopnafundi. "Ég tel að hér sé um að ræða heimsatburð", segir hann við Morgunblaðið og bætir við, "Ég er stoltur og þakklátur íslensku sérfæðingunum fyrir þeirra stóra þátt í þessu máli." Í útvarpsfréttum í gærkvöld sagði Halldór að hann hefði alltaf vitað að gereyðingarvopn væru í Írak. Og nú væri sönnunin komin. Auðvitað kemst maður við yfir barnslegri gleði þeirra manna sem studdu árásina á Írak...

10. Janúar 2004

Málflutningur SA um opinbera starfsmenn: Rugl eða rógur?

Talsmenn atvinnurekenda fara nú mikinn. Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins benda á, að frá 1997 til 2002, hafi starfandi fólki á Íslandi fjölgað í heild um tæp 15 þúsund eða 10,4%. En viti menn, aðeins hafi fjölgað um 8% í einkageiranum en um rúm 17% hjá hinu opinbera. "Tímabilið einkennist þannig af örri fjölgun opinberra starfsmanna og vaxandi hlutdeild hins opinbera á vinnumarkaðnum." Þetta þykja þeim SA mönnum illar fréttir og segja mikla vá fyrir dyrum ef þessi þróun verði ekki stöðvuð hið fyrsta. Eftir SA var haft í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að mikil "fjölgun opinberra starfsmanna hér á landi (væri) verulegt áhyggjuefni enda dragi slík þróun úr hagvexti." Og orðrétt sagði Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins...

9. Janúar 2004

Hvað vill Ingibjörg Sólrún Gísladóttir láta einkavæða?

Það er merkilegt hve áhugasamir ýmsir aðilar innan Samfylkingarinnar virðist vera um einkavæðingu. Í fréttum í kvöld birtist formaður svokallaðrar Framtíðarnefndar flokksins til að lýsa þeirri skoðun sinni að ekki beri nauðsyn til að opinberir starfsmenn sinni almannaþjónustunni. Þetta er hárrétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem gegnir formennsku í framangreindri nefnd. Það er vissulega hægt að einkavæða þessa þjónustu og fela hana fyrirtækjum á markaði. En hvaða þjónustu telur hún ...

8. Janúar 2004

Nöldur Davíðs Oddssonar

Birtist í Fréttablaðinu 07.01.2004
Ráðamenn sem tala á þann drambsama hátt til þjóðarinnar, sem Davíð Oddsson gerði á gamlársdag, verða að fá orð í eyra. Þeir þurfa aðhald. Þeir þurfa hreinlega á leiðsögn að halda. Í því efni má þjóðin ekki bregðast þeim...

7. Janúar 2004

Læknar á hálum ís

Læknafélg Íslands kórónar nú allt með því að segja að beini TR sjúklingum inn í almennu heilsugæsluna eða á sjúkrahús þá sé það að öllum líkindum lögbrot. Og lögin sem Læknafélagið segir brotin eru samkeppnislög. Talsmenn sérfræðilækna skyldu fara varlega í að tala um blautar tuskur. Almennt eru læknar samfélagslega sinnuð og ábyrg stétt. Hún má ekki láta bisnissmenn úr sínum röðum taka völdin og stýra förinní kjarabaráttunni...

6. Janúar 2004

Enn um lífeyrisfrumvarp

Ég vil byrja á að hrósa þér fyrir að taka strax afstöðu gegn hinu umdeilda frumvarpi um eftirlaun ráðherra og hækkun til formanna þingflokka stjórnarandstöðu.  Ég get ekki skilið af hverju þingmenn þurfa betri eftirlaun en aðrir í þjóðfélaginu, eða þeir þurfi að vera betur tryggðir heldur en aðrir...
Sigurbjörn Halldórsson.

4. Janúar 2004

“Segðu mér hverja þú átt að vinum og ég skal segja þér hver þú ert.”

Í ávarp forseta Íslands við áramót lagði hann mikla áherslu á hlutverk Íslendinga í breyttum heimi. Á sviði viðskipta væri landslag breytt og tækifæri mikil. Fram kom í ávarpinu að íslenskir athafnamenn eigi kost á stjarnfræðilegum gróða ef rétt væri á málum haldið. Mikilvægt væri að draga ekki úr frelsi til athafna með óþarfa lagasetningu sem hefti starfsemi...
Bjarni

4. Janúar 2004

Um annála, skaupið og áramótaávörp: Markús Örn með vinninginn

Ólafur Ragnar Grímsson hefur sagt margt ágætt í ávarpsorðum sínum til þjóðarinnar á nýjársdag á liðnum árum og vissulega var sitthvað ágætt í ávarpinu að þessu sinni. En það á ekki við um meginstefið, nefnilega, að við megum ekki vera vond við ríka fólkið, því það þurfi svigrúm til að "athafna sig". Þessi áskorun var sett í búning sanngirninnar! Á öðru var þörf frá Bessastöðum nú, í samfélagi vaxandi misskiptingar....Davíð Oddsson var ánægður með sig og sína í sínu ávarpi. Hér á landi væri allt í stakasta lagi...En viti menn, undir miðnættið á gamlárskvöld birtist síðan Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri með aldeilis bráðgóða hugvekju, þátt um Sigvalda Kaldalóns tónskáldið mikla. Það var einstaklega vel til fundið af Markúsi Erni að flétta saman lífshlaup og list Sigvalda sinni hugvekju og á útvarpsstjóri...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Allar greinar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta