Beint á leiðarkerfi vefsins

31. Desember 2003

Heimanmundur í bankastjórastól KB bankans?

Menn velta fyrir sér hvað valdi viðsnúningi þeirra SPRON manna, sem fyrir ári eða svo máttu ekki heyra á það minnst að verða gleyptir af Búnaðarbankanum. Nú eru menn hins vegar farnir að reyna að skýra skákina og má sjá eina slíka skákskýringu í bréfi frá Bjarna á heimasíðunni í dag. Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri í SPRON er höfuðpaurinn í...

31. Desember 2003

Guðmundur Hauksson í bankastjórastól KB bankans?

Það hefur verið vitað allt frá því Búnaðarbankinn var seldur að bankastjórastóll væri ætlaður Guðmundi Haukssyni. En fyrst væri rétt að brjóta sparisjóðakerfið niður og ná tökum á SPRON sem hefur í viðskiptum marga og öfluga einstaklinga og félög. Eining hafði skapast í stjórn SPRON um ráðahaginn og stofnfjárfestar undu vel hag sínum því vel var boðið. Nú hefur komið upp einhver titringur meðal stofnfjárfesta...
Bjarni

31. Desember 2003

Framsókn prangað inn á þjóðina

Ég var að hlusta á Útvarp Sögu í morgun þar sem þið Guðjón Ólafur Jónsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, ræddust við. Þetta var ágæt umræða og hin rólegasta þar til undir lokin, að kosningabaráttuna sl. vor bar á góma. Ég er hjartanlega sammála því sem þú sagðir að það er kraftaverki næst hvernig...
Sunna Sara

29. Desember 2003

"Frelsisvæðingin" og teknókratar í turnunum tveimur

Þetta er það sem Samfylkingin íslenska, kallar "tveggja turna" kerfi. Yfirfært á íslenska pólitík eiga turnarnir tveir að vera Sjálfstæðisflokkur annars vegar og Samfylking hins vegar. Í Kastljósi RÚV í kvöld heyrðum við sjónarmiðin úr turnunum tveimur auk þess sem...

28. Desember 2003

Þegar féhirðir hirðir fé

Birtist í Fréttablaðinu 27.12.2003
Pétur H Blöndal alþingismaður hefur oft haft á orði að sparisjóðir landsins hafi að geyma fé án hirðis. Með þessu vill Pétur leggja áherslu á að ef ábyrgðarmaður fjármálastofnana hefur ekki beinna persónulegra hagsmuna að gæta eða er ekki beint ábyrgur gagnvart slíkum hagsmunatengdum aðilum þá kunni illa að fara fyrir hinum geymdu fjármunum. Þeir sem njóta þjónustu sparisjóðanna í landinu hafa fæstir deilt þessum áhyggjum með Pétri H. Blöndal og það eru...

27. Desember 2003

Hver vill eyðileggja SPRON?

Ég er sannfærður um að ástæðan fyrir því að til stendur að umbylta SPRON, Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, er fyrst og fremst sprottin af ágengni nokkurra stofnfjárfesta sem sjá fram á að geta hagnast vel á sölu bréfa sinna. Stjórnarmenn í SPRON hafa eflaust talið að...

25. Desember 2003

Tökum sameiginlega á!

Fyrst var það einkavæðingin, svo komu Kárahnjúkar, bankarnir, starfsloka- og kaupaukasamningar, og nú síðast er það SPRON. Ég spurði einn ágætan félaga minn og baráttuhauk, Svein Aðalsteinsson hvað hann teldi vera til ráða. Hann sagði að þetta væri eins og að eiga við tröll, en "þau munu daga uppi", sagði Sveinn, "ef við beitum  afli upplýsinga gegn þeim". Ég bað Svein um að segja okkur í knöppu formi...

25. Desember 2003

Sveinn Aðalsteinnsson um Átökin við tröllin

Hvað er til ráða?
Afl upplýsinga,
dregur úr ótta við valdið,
....

23. Desember 2003

Aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar leiðréttur

Birtist í Morgunblaðinu 22.12.2003
Í laugardagsútgáfu Morgunblaðsins skrifar Björn Ingi Hrafnsson grein, sem ber titilinn Traust og trúverðugleiki. Höfundur, sem titlar sig "varaþingmaður Framsóknarflokksins og aðstoðarmaður utanríkisráðherra", rís því miður ekki undir þessari dýru fyrirsögn greinar sinnar því hann gerist þar sekur um að fara með staðlausa stafi. Umræðuefni Björns Inga er margumtalað lífeyrisfrumvarp ríkisstjórnarinnar...

23. Desember 2003

Takk fyrir frumkvæði í SPRON málinu

Ég horfði á ykkur Pétur Blöndal takast á um SPRON málið á Stöð tvö í gærkvöldi. Þetta samtal hefur verið talsvert í umræðu manna á meðal í dag. Þarna varstu að ræða við mann sem sjálfur hefur hagsmuna að gæta því eftir því sem ég best veit er hann stofnfjáreigandi og kemur til með að hagnast um verulegar fjárupphæðir ef þessi sala verður að veruleika. Nú vill svo til að ég þekki svolítið til...
Hafsteinn Orri

22. Desember 2003

Stóri Bróðir vakir

Í morgun vöknuðum við upp við að hryðjuverkasamtökin Al Queda væru með stórárás í undirbúningi. Fulltrúi Bandaríkjastjórnar hvatti til þess í morgunútvarpinu okkar að ferðamenn hefðu augun hjá sér. Með árvekni gætum við komið í veg fyrir hryðjuverk. Sem betur fer er búið að herða allt öryggiseftirlit í heiminum og er í auknum mæli fylgst með öllum "vafasömum"  karakterum. Við megum ekki láta það trufla okkur þótt einnig þurfi...

20. Desember 2003

Um greiðslur til formanna stjórnarandstöðuflokkanna

Birtist í Morgunblaðinu 19.12.2003
Nú vill svo til að mér er kunnugt um það frá fyrstu hendi að hér var um að ræða launahækkanir af stærðargráðu sem formenn stjórnarandstöðuflokkanna höfðu efasemdir um þótt þeir væru sammála helstu efnisþáttum frumvarpsins og samþykktu þess vegna að það yrði lagt fram til þinglegrar meðferðar.
Í fjölmiðlum hefur að mínu mati verið vegið ómaklega að þessum mönnum því ekki hefur verið hirt um að skoða málið í réttu samhengi...

19. Desember 2003

Hverjir eru stjórntækir?

Birtist í Mbl. 18.12.2003
Allt þetta mál og málatilbúnaðurinn þar í kring gefur okkur hins vegar glögga innsýn í stjórnunarhætti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Forsvarsmenn þessara flokka koma sér saman um nýskipan í lífeyrismálum þingmanna, ráðherra og hæstaréttardómara. Þeir kynna engum málið í eigin röðum fyrr en tveimur klukkustundum áður en umfangsmikið lagafrumvarp um málaflokkinn er lagt fram í 22. greinum og með ítarlegri greinargerð. Þegar í stað er málið afgreitt í þingflokkum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Annað hvort hafa allir þingmenn verið sammála...

19. Desember 2003

Íslandsmethafinn, mannorð hans og forsætisráðherra

Meintur Íslandsmethafi í skattsvikum, Jón Ólafsson fyrrverandi Skífuþeytara og eigandi Norðurljósanna, hefur nú höfðað mál gegn Davíð Oddssyni forsætisráðherra. Eina sem Davíð hefur unnið sér til saka var að láta í ljósi þá sjálfsögðu skoðun sína, og túlkaði hann þar vafalaust viðhorf meirihluta þjóðarinnar, að kaup Jóns í Bónus í félagi, amk. að því er virðist, við Kaupþing-Búnaðarbanka á meintum eignum Jóns bæri brag af verslun með þýfi...
Þjóðólfur.

18. Desember 2003

Vill þjóðin þýlynda þingmenn?

Birtist í Fréttablaðinu 17.12.2003
Í kjölfar þess að ríkisstjórnin knúði í gegn frumvarp sitt um lífeyrismál þingmanna, ráðherra og hæstaréttardómara hefur hún látið höggin dynja á stjórnarandstöðunni. Að vísu eru þetta léttvæg högg en þeim mun óskammfeilnari eru þau. Davíð Oddsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst því yfir að stjórnarandstaðan sé ekki samstarfshæf og ...

17. Desember 2003

Samlíkingar Bjarna

Sæll Ögmundur og takk fyrir fremur málefnalega framkomu í stjórnmálum. Ertu ekki sammála mér í því að eftirlaunafrumvarpið sé efnislega skylt tveim öðrum "hasarmálum" þ.e. Búnaðarb.kaupþings látunum og öryrkjafrumvarpinu?: A) Búnaðarb.kaupþ.menn voru að tryggja sér...
Bjarni G. Bjarnason

16. Desember 2003

Er þetta ekki bara spurning um mannlausan hníf?

Ég fylgdist með því á BBC á sunnudaginn þegar ódámurinn og hrakmennið Saddam Hussein gekkst undir ítarlega athugun sérfræðinga eftir að hafa verið gómaður. Ég er ekki sleipur í dönskunni en þykist þó hafa skilið að á honum hafi hvorki fundist kjarnorkuvopn né efnavopn og var þó leitað bæði í hári og skeggi og eins í munni og vafalaust ...
Varði Straumfjörð

16. Desember 2003

Starfskjarafrumvarp

Ég hef lengi undrast það viðhorf margra að það eigi að vera einhvers konar lögmál að sumar stéttir eigi að hafa betri kjör en aðrar. ..
Valdimar

16. Desember 2003

Spurt um formann VG

Er Steingrímur J í felum?
Anna Fr. Jóh
Sæl Anna. Þetta er stutt og skorinorð spurning. Svarið er neitandi...

15. Desember 2003

Hvað merkir hjáseta?

Sæll Ögmundur. Ég er skoðanabróðir þinn í flestu og hef lengi verið glaður að hafa mann eins og þig á þingi að berjast fyrir okkur öll. Ég er með spurningu varðandi þetta blessaða eftirlaunafrumvarp. Hver er þýðingin á bakvið það að mótmæla opinberlega frumvarpi en sitja hjá í atkvæðagreiðslu á sama tíma ? Maður hefði haldið...
Sveinn

14. Desember 2003

bjorn.is, Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og lýðræðið

Vel má vera að formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks geti treyst hvor öðrum að rugga ekki bátnum um og stofna þannig völdum hvors annars í hættu. Það er þetta sem bjorn.is á við þegar staðhæft er að "traust" þurfi að ríkja á milli stjórnmálaflokka. Það þýðir í reynd að hafa á að skipa liði sem gerir það sem því er sagt. Öðru máli gegnir um hina sem vilja skoða málin á ígrundaðan hátt og taka síðan yfirvegaða afstöðu. Slíkt fólk er það sem bjorn.is og samstarfsfélagar hans í Framsóknarflokknum telja vera "óstjórnhæft."  ... 

12. Desember 2003

Brottfararkaup

Þrándi hefur löngum skilist að í orðinu þingfararkaup fælist að þingmenn fengju kaup fyrir að fara á þing og vera þar að ljöggjafarstörfum. Nú er aftur á móti komið upp nýtt fyrirbrigði sem vert er að gefa gaum að. Forsætisnefnd Alþingis hefur sem sé lagt fram frumvarp til laga um kaup ráðherra þegar þeir eru farnir af þingi og teknir að sinna öðrum áhugamálum en að stjórna landinu. Forseti þingsins hefur sagt að ein helsta röksemdin fyrir frumvarpinu sé sú að...
Þrándur

12. Desember 2003

Nokkrir góðir dagar án Davíðs

Í pistli sem birtist á síðunni í dag frá Þrándi er fjallað um hið umdeilda starfskjarafrumvarp á Alþingi þar sem gerðar eru  tillögur um breytt fyrirkomulag á lífeyrisgreiðslum þingmanna og ráðherra og þeim, sérstaklega ráðherrum, auðveldað að hætta störfum eftir tilltölulega skamman starfsaldur. Þetta þykir Þrándi hið besta mál og segir að gera þurfi ráðherrum, ekki síst forsætisráðherra, sem auðveldast að hætta: "Þjóðin hefur ekki nema gott af því að lifa nokkra góða mánuði án Davíðs." Þrándi þykir ósanngjarnt að...

10. Desember 2003

5068 eru atvinnulausir !

Birtist í Fréttablaðinu 09.12.2003
Í morgun heyrði ég í ágætum kunningja mínum. Hann var að segja mér þau tíðindi að hann væri í fyrsta sinn á ævinni að skrá sig atvinnulausan og sækja um atvinnuleysisbætur. Þetta er maður með vinnufúsan huga og hendur og á enga ósk heitari en að ...

9. Desember 2003

Öryrkjar Íslands og einn vinnandi lögspekingur

Maður er nefndur Jón Steinar Gunnlaugsson og er hæstaréttarlögmaður með meiru. Með reglulegu millibili birtast eftir hann í Morgunblaðinu innrammaðar viðhafnargreinar. Hvar hann hefur komist yfir þennan ramma veit ég ekki, kannski er það líka algert aukaatriði, en oftast er viðfang Jóns að verja einkavininn sinn, forsætisráðherrann. Í Mogganum 8. desember sl. bregður hins vegar svo við..
Þjóðólfur

9. Desember 2003

Jón Steinar fær orð í eyra

Í bréfi eða öllu heldur grein, sem birtist í lesendadálki síðunnar í dag, eftir Þjóðólf er vikið að grein sem Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður skrifar í Morgunblaðið um réttindabaráttu Öryrkja. Greinin heitir Öryrkjar Íslands og einn vinnandi lögspekingur. Þjóðólfur segir m.a....

8. Desember 2003

Gunnar Kristjánsson talar til okkar úr kirkju sinni

Er verjandi að trúa á Guð? Mörgum trúuðum finnst svarið við þeirri spurningu ekki lengur einhlítt. Væri þá ef til vill skynsamlegra að hafna Guði og gleyma öllum hugleiðingum um hann? Mörgum vantrúuðum finnst svarið við þeirri spurningu ekki lengur liggja í augum uppi. Margir trúaðir efast um trú sína og margir trúlausir efast um efa sinn. Hversu margir leita ekki að fullvissu í óvissu sinni, annað hvort í trú sinni eða vantrú?....

8. Desember 2003

Kirkjan getur brillerað

Ekki er kirkjunni alltaf lagið að tala sig inn í hjörtu þjóðarinnar – eða inn í heilabú hennar. Vissulega eiga prestar það til að vekja fólk til umhugsunar svo um munar. Það gerði séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós í messu sem útvarpað var sl. sunnudag. Mín skoðun er sú, að hann hafi brillerað. Mér segir hugur um að...

8. Desember 2003

Fákeppni og einokun á íslenskum lyfjamarkaði

Að undanförnu hefur farið fram mikil umræða í þjóðfélaginu um fákeppni, jafnvel einokun og óeðlilegt verðsamráð á ýmsum sviðum í efnahagslífinu, í verslun og þjónustu, olíusölu, í tryggingum, banka- og fjármálastarfsemi og nú síðast hafa sjónir manna beinst að lyfjum og fákeppni á sviði lyfjasölu. Í síðustu viku...

6. Desember 2003

Tyggjóeðli Framsóknar

Mér finnst tyggigúmmíkenningin sem þú settir fram á síðunni þinni á miðvikudag (3/12) frábær. Ég held að þú hafir hitt naglann á höfuðið. Framsóknarflokkurinn mun hanga í samstarfi við Sjálfstæðisflokksinn svo lengi sem hann á þess kost. Hann er tilbúinn að þola allar píslir fyrir ráðherrastólana. Auðvitað átti Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra að segja af sér þegar hann gat ekki staðið við samninginn sem hann hafði gert við Öryrkjabandalag Íslands. Mótsögnin í afstöðu minni alla vega, er hins vegar sú...
Hafsteinn Orri

5. Desember 2003

Þingmenn á gænni grein - ekki öryrkjar

Sæll, Ögmundur.
Mér heyrist á öllu að öryrkjar fái ekki allar þær bætur sem þeim var lofað. Væri ekki hægt að gera þá málamiðlun að allir öryrkjar með hámarks styrk og tekjutryggingu þurfi ekki að borga skatt og útsvar af tekjum sínum. Mér og mörgum fleirum finnst ...
Sigurður Þór Bjarnason

5. Desember 2003

Heilbrigða í sjúkrarúmin

Góður hagfræðingur er þarfasti þjónn nútímamannsins. Hann er vinurinn sem segir til vamms, á hann má stóla í hverri nauð, hann hefur vit á öllu sem við hin skiljum ekki. Hann útskýrir fyrir okkur í ljósu máli að Markaðurinn með stórum staf leysi, af ótakmarkaðri fórnfýsi, hvers manns vanda. Af næmni sinni fyrir því sem skiptir máli í lífinu veit hann að allt kostar peninga og þreytist ekki á að minna okkur á að fara vel með. Þorsteinn Gylfason prófessor er einn af...
Þrándur

5. Desember 2003

Verð ég að vita hvað það kostar að lækna mig?

Þrándur skrifar athyglisverðan pistil í dag þar sem hann víkur m.a. að skrifum Þorvaldar Gylfasonar prófessors í hagfræði í Fréttablaðinu. Þrándur veltir vöngum yfir skrifum um nauðsyn þess að neytendur fái jafnan að vita "hvað hlutirnir kosta í raun og veru". Þetta viðhorf tekur að mati Þrándar á sig vafasama mynd þegar...

3. Desember 2003

Tyggigúmmíkenningin

Því hefur verið fleygt að eitthvað kunni að vera að slettast upp á vinskapinn milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn og að þau tíðindi gætu jafnvel gerst að upp úr slitnaði í samstarfinu. Til marks um þetta hefur verið bent á nokkur dæmi um að Sjálfstæðisflokkurinn léti hugðarefni Framsóknar ekki ná fram að ganga og gerði ráðherra flokksins jafnvel ómerka orða sinna. Þar er sérstaklega bent á...

2. Desember 2003

Langar ríkisstjórnina til að rifja upp gamla tíma?

Mér fannst árið vera 1984 þegar Jónatan Þórmundsson prófessor við Háskóla Íslands birtist á sjónvarpsskjánum í kvöld. Í fréttaviðtali fjallaði Jónatan um lagafrumvarp Geirs H Haarde fjármálaráðherra, sem heimilar forstöðumönnum í ríkisfyrirtækjum að reka starfsmenn án skýringa. Allir hljóta að leggja við hlustir þegar Jónatan Þórmundsson leggur orð í belg og þegar hann víkur að grundvallarréttindum á vinnumarkaði er vert að hafa í huga..

30. Nóvember 2003

Tölvupóstsmaðurinn víki!

Sæll Ögmundur. Viðbrögð Friðriks Páls Jónssonar, ritstjóra Spegilsins, við athugasemdum fyrrverandi borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, núverandi útvarpsstjóra, eru skiljanleg í ljósi tölvupóstsendinga þess síðarnefnda. Þeim sem ekki búa í glerturni og hlusta á útvarp er ljóst að óttastjórn Markúsar er að fara illa með útvarpið og þeir sem telja útvarpið hafa hlutverk bregðast við þegar æðsti yfirmaðurinn dregur tennurnar úr útvarpinu, ljóst en einkum leynt. Ég get ekki tekið fyrir að rógsherferð sé í gangi gegn einhverjum starfsmönnum RÚV. Ég sé að...
Ólína

30. Nóvember 2003

RÚV í brennidepli

Atburðarásin í RÚV gerist sífellt harðari og ljóst að mikið kraumar undir. Viðbrögð þeirra Friðriks Páls Jónssonar og Kára Jónassonar, fréttastjóra útvarps, við gagnrýni útvarpsstjóra á Spegilinn eru mjög skiljanleg og sýnir að enn rennur blóðið í mönnum á þessum bæ – alla vega sumum. Í Fréttablaðinu í vikunni talar Friðrik Páll Jónsson...

29. Nóvember 2003

Óverðskulduð atlaga að frelsinu

Mikil og neikvæð umræða hefur að undanförnu farið fram um einkavæðinguna, frelsisvæðinguna í atvinnulífinu og einkaframtakið sem blessunarlega hefur fengið aukið olnbogarými í okkar ágæta samfélagi síðasta áratuginn eða svo. Tilefni neikvæðninnar og niðurrifsstarfseminnar er dæmigert fyrir íslenska þjóðfélagsumræðu sem er enn, þrátt fyrir allnokkra þéttbýlismyndun og vaxandi menntunarstig landsmanna, algerlega úti í móa og snýst langoftast um hreint og klárt smáfugladrit. Meira að segja ólíklegustu menn...
Þjóðólfur

29. Nóvember 2003

Er sprettan siðlaus?

Auðvitað eiga þau  Davíð Oddssson forsætisráðherra og Valgerður Sverrissdóttir bankamálaráðherra sér einhverja stuðningsmenn og jafnvel aðdáendur eins ósennilegt og það kann nú að hljóma. Einn slíkur, Þjóðólfur, fastur penni hér á síðunni, kveður sér hljóðs í dag í ítarlegri grein í lesendadálki heimasíðunnar. Þjóðólfur leynir ekki vonbrigðum sínum yfir viðbrögðum forsætisráðherra yfir...

28. Nóvember 2003

Mótsagnir hjá Samfylkingu?

Það hefði því verið nærtækara fyrir Samfylkinguna að álykta um að hún styddi ríkisstyrkt umhverfisspjöll á hálendi Íslands ef það glitti í peninga fyrir viðvikið. Sem og að Samfylkingin styddi ekki þjóðaratkvæðagreiðslu ef það þjónaði ekki hennar hagsmunum. Skammast þau sín fyrir málstað sinn í þessum efnum og reyna að breiða yfir hann með fallegu orðalagi í landsfundarályktun?Að lokum...
Jónína

28. Nóvember 2003

Undarlegar reikningskúnstir

Sæll Ögmundur.
Ég hafði virkilega gaman af pistli Þrándar sem birtist hér um daginn. Gædd er grædd rúbbla nýju lífi, þar sem hann fjallar um raunverulega eignaaukningu hinna nýju eigenda gömlu ríkisbankanna. Þrándur fær upp miklu hærri upphæðir en aðrir með því sem hann kallar hinar einföldu reikningskúnstir. Ég held að hann sé nær sannleikanum en aðrir með sinni aðferðafræði. En talandi um hinar einföldu reikningskúnstir, þá segir á síðu tvö í Fréttablaðinu í gær...
Hafsteinn Orri

28. Nóvember 2003

Um Björgólf, Búlgaríu og Blair

Sæll, Ögmundur !
Átti reyndar ekki að vera spurnarform, en.......mikið andskoti gladdi mitt fasíska hjarta, að sjá snuprur þínar til nýgróðadrengsins Björgólfs Thors, í Fréttablaðinu, 12.XI.Virkilega ánægjulegt að sjá hvernig þú hnykktir á Búlgaríuhneyksli þessarra...
Óskar Helgi Helgason

27. Nóvember 2003

Þegar tveir deila – ávöxtun almennings

Sæll Ögmundur. Fáir þekkja betur en þú aðstæðurnar sem skapast þegar menn semja um kaup og kjör. Þú veist að stundum þarf að knýja fram lausn með verkfalli, stundum knýr atvinnurekandinn fram vilja sinn með afli, lögum, eða jafnvel bráðabirgðalögum. Það kemur líka fyrir að menn ná farsælli lendingu í samningum þegar allir standa upp frá borðinu sáttir og án átaka. Þetta síðast talda virðist hafa gerst í sumar þegar stjórn Kaupþings&Búnaðarbanka lagði drög að bónussamningi við stjórnarformanninn og forstjórann, þá Sigurð og Hreiðar. Hingað til hefur þjóðfélagið einblínt...
Ólína

27. Nóvember 2003

Sjaldan veldur einn þá tveir deila með sér ávöxtunum

"Í nafni hverra rétti Finnur Ingólfsson upp höndina við gljáfægt harðviðarborðið í haust þegar hann gekk endanlega frá upphæðunum og dagsetningunum sem lengi var togast á um? Beinist reiði forsætisráðherra ef til vill gegn þeim hluthafahópi sem Finnur er fulltrúi fyrir?" Þetta kemur meðal annars fram í pistli Ólínu hér á síðunni í dag en hún veltir því réttilega fyrir sér hvernig á því standi að kastljósum fjölmiðla sé ekki beint að þeim sem sátu handan samningaborðsins, kjölfestufjárfestum þeirra Davíðs og Valgerðar...

27. Nóvember 2003

Ríkisstjórn Reykásanna

Birtist í Fréttablaðinu 26.11.03
Allir þekkja Ragnar Reykás þeirra Spaugstofumanna. Hann er persónugervingur hentistefnunnar, kann öllum öðrum betur að haga seglum eftir vindi, venda sínu kvæði í kross ef honum þykir henta. Ragnar Reykás á fáa sína líka. Það er helst að hann finni jafningja sína í  ríkisstjórn Íslands. Hún hefur átt stórfenglega spretti í uppákomum af því tagi sem Ragnar er kunnur fyrir.
Að öðrum ólöstuðum stendur forsætisráðherrann flestum framar hvað þetta varðar. Að undanförnu höfum við kynnst vandlætaranum Davíð Oddssyni með seðlabúntið í annarri hendinni, volgt úr fjárhirslum Búnaðarbankans, og Passíusálma Hallgríms Péturssonar í hinni. Þetta er sami maður og fyrir örfáum misserum hvatti þjóðina til dáða í lífsgæðakapphlaupinu...

25. Nóvember 2003

Ný raforkulög leiða til verðhækkunar fyrir almenning

Sæll Ögmundur og þakka þér fyrir öfluga heimasíðu. Tilefni þess að ég sendi inn þessa línur er það að ég sá að þú vitnaðir þar til fréttar í Morgunblaðinu af raforkuráðstefnu VFÍ og TFÍ sem haldin var 20.nóvember sl. Þar bentir þú réttilega á rakalausan málflutning iðnaðarráðherra þegar kemur að því að réttlæta ný raforkulög. Fulltrúi iðnaðarráðherra á ráðstefnunni notaði frasa eins og "hefðbundin viðhorf hafa verið að breytast" og að "flest þróuð ríki" hafa tekið upp einkavæðingu raforkugeirans eins og það væri í sjálfu sér einhvers konar sönnun fyrir ágæti þessara breytinga. Auk þess sem...
Kv.Helgi

25. Nóvember 2003

Fjölmiðlamenn kynni sér bréf Helga

Í lesendadálkinum í dag er einkar athyglisvert bréf sem hlýtur að verða okkur öllum , ekki síst fjölmiðlamönnum, umhugsunarefni. Bréfritari sat nýlega ráðastefnu um raforkumál. Þar kom fram hjá Friðriki Sophussyni, forstjóra Landsvirkjunar og Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að með markaðsvæðingu raforkugeirans myndi raforkuverð til heimilanna að öllum líkindum hækka. Ég tek undir með bréfritara, Helga, að undarlegt má heita að yfirlýsingar af þessu tagi skuli ekki enduróma í þjóðmálaumræðunni. Í bréfinu...

23. Nóvember 2003

Neglt fyrir niðurföll – um Blair, Bush og menn okkur nær

Þess má geta til gamans að Bush líkti Blair við Winston Churchill vegna hugrekkis hans. Í því sambandi koma upp í hugann ummæli utanríkisráðherra í landi norðvestur af Bretlandi sem kvaðst dást að Blair fyrir að hafa til að bera staðfestu og hugrekki að senda unga menn í stríð! En það er fleira sem kemur upp í hugann sem minnir á íslensku ríkisstjórnina við þessa heimsókn Bush til Blairs og það er að forsetinn mætti ekki sjá mótmælendur og þá sérstaklega að ljósmyndarar gætu aldrei fangað forsetann á mynd með mótmælendum. Óneitanlega minnir þetta á Íslandsheimsókn forseta Kína...

21. Nóvember 2003

Valgerði ögrað og Davíð vill að menn sýni ábyrgð!

Það er alveg rétt hjá Valgerði Sverrisdóttur bankamálaráðherra að hún hefur ekki verið með stór orð "um það sem er að gerast á markaðinum" en þeim mun stærri hafa gjörðir hennar verið. Eru það ekki nýju "kjölfestufjárfestarnir" sem hún fékk Búnaðarbankann í hendur sem eru að gera þessa samninga við stjórnendur sem þeir telja vera þyngd sinnar virði í gulli? Getur það virkilega verið að ráðherrar ríkisstjórnarinnar sjái ekkert samhengi á milli eigin gjörða og hvernig komið er meðferð fjármuna í þjóðfélaginu? Forsætisráðherrann, Davíð Oddsson, hefur sýnt okkur í fréttaviðtölum í dag að hann gerir það ekki! Hann kemur af fjöllum og...

21. Nóvember 2003

Sjúkdómavæðing stjórnmálanna

Sæll Ögmundur.
Nokkrir núverandi og fyrrverandi þingmenn svokallaðra jafnaðarmanna hafa haldið á lofti nýrri framtíð i heilbrigðismálum landsmanna, bæði framtíð þeirra sem hafa ráð á henni og hinna sem fyrirsjáanlegt er að verða fyrir barðinu á nýfrjálshyggjunni. Lausnin felst í markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins segja þeir. Það er leiðinlegt að segja það en Össur Skarphéðinsson virðist á þessu sviði svo grunnhygginn að raunalegt er upp á að horfa. Smæð hans slík að mér er til efs að jafnaðarmannaleiðtogar hafi í seinni tíð sýnt annað eins í orði og ljóst að hinar siðfræðilegu gaddavírsgirðingar liggja við samfylkingarjörðina eða oní henni. Það er ekki nóg fyrir stjórnmálaleiðtoga að...
Ólína

21. Nóvember 2003

Fyrirspurn til Samfylkingarinnar um sjúkdómavæðingu stjórnmálanna

Formaður Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, fær á sig harkalega gagnrýni í bréfi frá Ólínu í dag fyrir að daðra við einkavæðingu heilbrigðiskerfisins. Nokkrir "núverandi og fyrrverandi þingmenn svokallaðra jafnaðarmanna hafa haldið á lofti nýrri framtíð i heilbrigðismálum landsmanna, bæði framtíð þeirra sem hafa ráð á henni og hinna sem fyrirsjáanlegt er að verða fyrir barðinu á nýfrjálshyggjunni", segir Ólína m.a.. En hún gengur lengra því hún víkur að því sem hún kallar sjúkdómavæðingu stjórnmálannna og staðnæmist þar við Einar Karl Haraldsson, sem hún réttilega vísar til sem eins af hugmyndafræðingum Samfylkingarinnar...

18. Nóvember 2003

Gædd er grædd rúbbla nýju lífi

Nú á dögum er ekkert grín að brjóta hin æðri rök tilverunnar til mergjar – einkum þann hluta þeirra sem snýr að peningum - , nokkuð annað en áður fyrr á æskudögum Þrándar. Þá gaf Landsbankinn skólabörnum bankabók með 10 krónu innistæðu undir kjörorðinu Græddur er geymdur eyrir. Og ekki nóg með það: bankinn fylgdi þessu ,,markaðsátaki” eftir með því að gefa krökkunum kost á að kaupa sparímerki. Þau átti að líma inn í bók eins og frímerkjasafn og hækka innistæðu í bankanum um leið. Þannig var börnunum kennt á gullaldarmáli að skilja gildi þess að spara. Síðan voru ungmenni beinlínis skylduð með lögum til að spara...
Þrándur

18. Nóvember 2003

Landsbankinn, Þrándur og Rússagullið

Mjög athyglisverðar vangaveltur er að finna i hugleiðingum Þrándar  i dalkinum Spurt og spjallað i dag. Hann sér sparnað i nýju samhengi og Rússagullið líka: " Í stað þess að Landsbankinn gefi börnum þjóðarinnar tíkall, gefur þjóðin Landsbankann mönnum sem kunna að gæða þær rúbblur, sem þeir hafa þénað hjá Rússum, nýju lífi. Má því segja að loks sé Rússagullið komið í ljós - en vissulega í óvæntum stað..."

14. Nóvember 2003

Ekki allir að gera það gott

Í frétt í sænska blaðinu Aftonbladet sl. þriðjudag (11/11) segir að raforkuframleiðendur í Svíþjóð geri það gott. Raforkuframleiðendur í Svíþjóð eru ekki lengur sænskir nema að litlum hluta. Þrír stórir framleiðendur eru í landinu, Vattenfall (í sænskri eigu), Sydkraft ( í þýskri eigu) og Fortun ( í finnskri eigu). En þótt þessi fyrirtæki séu að gera það gott er ekki þar með sagt að sænskir neytendur séu ánægðir. Í frétt í Aftonbladet segir...

14. Nóvember 2003

Public Service International (PSI) – Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu

Frá þriðjudegi til föstudags hefur staðið yfir fundur í stjórn PSI en þar á ég sæti. Stjórnarmenn koma frá öllum heimshornum en samtals eiga aðild að samtökunum 20 milljónir, allt starfsmenn innan almannaþjónustunnar. Fundurinn er vel skipulagður, miklar upplýsingar eru settar fram á markvissan hátt. Þannig má nefna kynningu á skýrslu um heilbrigðisþjónustuna í austanverðri Evrópu og þær breytingar sem eru að verða á henni. Titill skýrslunnar vísar til þess að breytingarnar séu til ills...

13. Nóvember 2003

Björgólfur og Bandaríkin lýsa áhyggjum

Birtist í Fréttablaðinu 12.11.2003
Í sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins  var mjög athyglisverð grein um Búlgaríu og afskipti "okkar" manna af málum þar. Í samantekt blaðamanns af eigin frásögn kom eftirfarandi fram: " Björgólfur Thor Björgólfsson lýsir þungum áhyggjum erlendra fjárfesta af hægfara einkavæðingarferli í Búlgaríu. Hann flutti framsögu á ráðstefnu helstu áhrifamanna í búlgörsku viðskiptalífi. Sjónarmiðin hafa vakið athygli búlgarskra fjölmiðla. Kaup hans og annarra á búlgarska landssímanum eru í pólitískum hnút."

13. Nóvember 2003

Engin hætta steðjar að eignaréttinum

Breska sjónvarpið, BBC,  sagði í fréttaskýringu í vikunni að "engin hætta steðjaði að eignaréttinum" í Rússlandi. Umfjöllunarefni fréttaskýringarinnar var fangelsun auðjöfursins  Mikhail Khodorkovsky. Hann er einn ríkasti maður Rússslands og einn stórtækasti þjófurinn í hópi þeirra sem sem nýttu sér pólitíska aðstöðu sína til að stela samfélagseignum eftir fall kommúnismans...

13. Nóvember 2003

Niður með Kynþáttamúrinn segir VG

Hvað hefði heimurinn sagt ef kynþáttastjórnin í Suður-Afríku hefði reist aðskilnaðarmúr eins og ísraelska ríkisstjórnin er að reisa utan um byggðir Palestínumanna? Ég leyfi mér að fullyrða að viðbrögðin hefðu orðið sterkari. Hvers vegna? Ofbeldið nú er að öllu leyti framið í skjóli Bandaríkjamanna ...

10. Nóvember 2003

Góður Landsfundur VG

Um helgina hélt Vinstrihreyfingin grænt framboð einstaklega vel heppnaðan landsfund. Ályktað var um aðskiljanleg efni og var mikil áhersla á velferðarmál, umhverfismál og alþjóðamál. Umræða um jafnrétti kynjanna setti einnig mjög svip á fundinn. Hann var góður að mjög mörgu leyti. Eftir hann liggur afrakstur mikillar stefnumótunarvinnu og frá fundinum komu mjög jákvæð skilaboð út í þjóðfélagið. Þessi skilaboð um baráttuglaðan vinstrisinnaðan félagshyggjuflokk voru mörgum mjög kærkomin í kjölfar ...

9. Nóvember 2003

Söfnum fyrir Sjónarhól

Birtist í Morgunblaðinu 08.11.2003
Mörgum reynist nefnilega erfitt að finna lykilinn að þeirri velferðarþjónustu sem er í boði eða á að vera í boði lögum samkvæmt. Þetta er frábært framtak og vona ég að sú landssöfnun sem er framundan skili góðum árangri. Það mun gagnast börnunum og fjölskyldunum sem í hlut eiga og það er mín sannfæring að það muni einnig styrkja velferðarþjónustuna, stuðla að því að hún verði opnari og markvissari...

9. Nóvember 2003

Eru Samfylkingin og Verslunarráðið búin að ná saman?

Birtist í Morgunblaðinu 08.11.2003
Verslunarráðið og markaðssinnarnir í Sjálfstæðisflokknum hafa fram undir þetta sagt að viðbótarfjármagn muni koma inn í þjónustuna í formi notendagjalda. Á fyrsta kjörtímabili Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var þetta líka boðskapurinn. En hann féll í grýtta jörð hjá þjóðinni. Þá varð kúvending hjá öllum þessum aðilum. Nú var sagt: Allir eiga að hafa jafnan aðgang, ríkið á einfaldlega að borga brúsann. Það eina sem við viljum er að einkafyrirtæki fái að annast framkvæmdina – og væntanlega hirða gróðann. Mörgum brá óneitanlega í brún þegar þessi boðskapur kom síðan frá nýafstöðnu þingi Samfylkingarinnar, fyrst í ræðu formanns og síðan í sölum Alþingis...

6. Nóvember 2003

Í afmælisboði hjá hágé

Helgi Guðmundsson rithöfundur með meiru varð nýlega sextugur. Ekki bauð hann til hefðbundins afmælisfagnaðar að þessu sinni. Hins vegar bauðst hann til að lesa fyrir okkur um hinn breyska en góðviljaða heimiliskött, Markús Árelíus. Bækurnar um Markús Árelíus las Helgi á sinni tíð í Ríkisútvarpinu en nú...

5. Nóvember 2003

Box og rjúpa eru merki mitt, merki jarðvegsfræðinganna

Nú hafa þau stórtíðindi gerst að fulltrúi karlmennskunnar og Kópavogsbúa á Alþingi Íslendinga hefur flutt sitt annað þingmál eftir að hafa vermt þingbekkina allar götur frá árinu 1999. Eftir mikinn barning...
Varði Straumfjörð

5. Nóvember 2003

Tvær bækur, Donald Rumsfeld og George Orwell

Nýlega fékk ég að gjöf tvær bækur. Af stríði heitir önnur þeirra og er gefin út af Nyhil útgáfunni, hin ber titilinn Ljóðin þín, eftir Harald S Magnússon. Gefendum kann ég hinar bestu þakkir. Ritstjóri fyrrnefndu bókarinnar er Haukur Már Helgason og er hann stórskemmtilegur penni. Bókin ber þess merki að hún verður til í aðdraganda Íraksstríðsins. Þeir sem skrifa í bókina eru ekki stuðningsmenn þess stríðs – að einum undanskildum: Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra, Bandaríkjanna. Sem listamaður mun ljóðskáldið Donald Rumsfeld vera lítillætið uppmálað, hafði ekki einu sinni gert sér grein fyrir því að hann væri ljóðskáld...

4. Nóvember 2003

Gott vaxtafrumvarp

Sæll Ögmundur. 
Fagna frumvarpi þínu um bann við hækkun vaxta á verðtryggðum lánum.  Ég hef líka verið að velta því fyrir mér hvort ástæða fyrir háu vaxtastigi hér að minsta kosti til einstaklinga sé sú að þeir séu að greiða tap bankanna á lánum til fyrirtækja. Ef almúginn ætlar að fá lán verður hann að hafa að minnsta kosti tvo ábyrgðarmenn og verða þeir helst...
Sigurbjörn Halldórsson

4. Nóvember 2003

Mælikvarði á gæði?

Það var athyglisvert að hlusta á þá Styrmi Gunnarsson ritstjóra Morgunblaðsins og Björgólf Guðmundsson fjármálamann í morgunútvarpi RÚV glóðvolga af þingi Samfylkingarinnar. Ekki svo að skilja að þeir séu Samfylkingarmenn heldur voru þeir fengnir á þing Samfylkingarinnar sem sérstakir gestir til að örva þar umræðu. Samfylkingin vill greinlega stækka sig til hægri og voru þessir ágætu fyrirlesarar...

3. Nóvember 2003

Hnöttótt eftir allt saman? Össur boðar róttæka endurskoðun

Samfylkingin stendur í ströngu. Innan hennar á sér stað frjó og fordómalaus málefnavinna sem á sér lítil takmörk. Allir muna eftir Evrópuumræðunni sem var til lykta leidd með...
Þjóðólfur

2. Nóvember 2003

Um einhleypa öryrkja

Sæll Ögmundur!
Mig langar að spyrja hvort vænta megi frumvarps frá Vinstri grænum eða stjórnarandstöðunni um málefni einhleypra öryrkja og þeirra öryrkja sem verst standa. Þrátt fyrir tölfræðiblekkingar ríkissstjórnar...
Kveðja,
Hafþór Baldvinsson

2. Nóvember 2003

Nýpóleruð, fátækleg hugsun

Ég var ein af fjölmörgum sem hlustuðu á Össur Skarphéðinsson, formann Samfylkingarinnar, halda ræðu s.l. föstudag. Það sem mér þótti athyglisverðast var að formaðurinn ætlar að setja einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar á dagskrá flokks síns. Ég leit í kringum mig undir þessum hluta ræðu formannsins og það voru sannarlega fleiri en ég sem klóruðu sér undrandi í höfðinu. Seint verður sagt um aðstoðarmenn Össurar ...
Ólína

2. Nóvember 2003

Varnaðarorð!

Það vita allir að Samfylkinguna langar óumræðilega til að verða stór flokkur. Ekki höfðu menn þó almennt hugarflug til að ímynda sér að öllu væri fórnandi til þess! Til að ná til kjósenda á hægri vængnum í stjórnmálum er flokkurinn farinn að tala fyrir málstað Verslunarráðs Íslands og vill markaðvsvæða heilbriðgðisþjónustuna. Ólína rifjar upp, í mjög athyglisverðu bréfi í dag...

1. Nóvember 2003

Að borga fyrir ýsuflakið frá í gær

Birtist í Morgunblaðinu 31.10.2003
Hvergi á byggðu bóli eru peningar eins rækilega tryggðir og á Íslandi. Víðast hvar annars staðar er verðgildi lánsfjármagns tryggt annað hvort með vísitölubindingu eða með breytilegum vöxtum. Báðar þessar aðferðir eru notaðar til að...

1. Nóvember 2003

Um breytta tíma...og nýjan fána

Einnig myndi það vera gleðileg sjón að sjá hinn íslenska her marséra á vígvöllinn með hvítan fána í broddi fylkingar, þeir gætu tekið einn hring og síðan heim aftur, án nokkurs mannfalls. Íslenski herinn myndi standa öllum herjum heims framar hvað mannfall og hugsjónir varðar...
Glói Gjallandason

1. Nóvember 2003

Himinlifandi Ásta

Í morgun var ég í þætti Þorfinns Ómarssonar ásamt þeim Bryndísi Hlöðversdóttur þingmanni Samfylkingarinnar og Ástu Möller varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins. Það vakti athygli að Ásta lék við hvern sinn fingur. Ekki svo að skilja að hún sé ekki lífsglöð manneskja, en greinilegt var að nú var sérstakt tilefni til að gleðjast...

31. Október 2003

BSRB býður upp á GATS

Mikilvægustu samningaviðræður sem nú fara fram á alþjóðavettvangi tengjast svokölluðum GATS-samningi. Samningurinn fjallar um viðskipti með þjónustu (General Agreement on Trade in Services). Það er Alþjóða viðskiptastofnunin ( WTO) sem heldur utan um samningsferlið . Yfir því hefur hvílt óþægilega mikil leynd og hefur verkalýðshreyfingin um víða veröld reynt að fá henni aflétt og hafa áhrif á þróunina. Hér á landi hefur BSRB staðið í fararbroddi enda þar á bæ menn vel meðvitaðir um að með GATS samningnum er stefnt að markaðsvæðingu allrar samfélagsþjónustu.

31. Október 2003

Áhrifamikill leikþáttur um einelti

Þetta er ekki leikdómur heldur hvatning til allra að sjá þetta verk. Á rúmum klukkutíma fáum við innsýn í veröld þjáningar, sem því miður er sennilega allt í kringum okkur án þess að við gerum okkur það alltaf ljóst. Leiksýningin er gefandi og skemmtileg, eins mótsagnakennt og það kann nú að hljóma í ljósi þess hvert viðfangsefnið er. Það eigum við hins vegar góðu leikriti og ekki síður frábærum leik Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur að þakka...

30. Október 2003

Bankarnir vilja fjölga milliliðum

Alveg eru þeir stórfenglegir hjá bönkunum þessa dagana. Þeir segjast vilja fá inn til sín umsýslukerfið fyrir húsbréfin. Íbúðalánasjóður á að verða "heildsala" sagði talsmaður fjármálastofnana, Guðjón Rúnarsson, í viðtalsþætti Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu. Þetta yrði miklu hagkvæmara fyrir lántakandann...

30. Október 2003

Skýr skilaboð frá BSRB

Birtist í Fréttablaðinu 29.10.2003
Á meðal þeirra málaflokka sem fjallað var um á nýafstöðnu þingi BSRB voru húsnæðismál. Á því sviði hefur bandalagið markað skýra stefnu þar sem gert er ráð fyrir samvinnu ríkis, sveitarfélaga og lífeyrissjóðanna í landinu en eignir þeirra munu innan fjögurra ára nema um eitt þúsund milljörðum króna. Fráleitt er annað en að þessi sparnaður, sem samfélagið hefur komið sér saman um, verði nýttur í uppbyggileg verkefni. Þar er húsnæðiskerfið ofarlega á blaði. Reyndar hafa lífeyrissjóðirnir staðið sig sæmilega í seinni tíð að fjárfesta í húsbréfum. Slíkt forðar okkur frá kjararýrandi afföllum auk þess sem þetta er einhver öruggasta fjárfesting sem lífeyrissjóðirnir geta ráðist í. En lífeyrissjóðirnir þurfa að ganga lengra.

29. Október 2003

Vaxtalækkun er kjarabót

Sæll Ögmundur. 
Ég var að hlusta á þig á útvarpi Sögu í morgun og einnig að lesa grein eftir þig í Fréttablaðinu.  Ég vil þakka þér fyrir hvað þú stóðst þig vel og eins fannst mér greinin eftir þig mjög góð.  Ég tel að ein besta kjarabót fyrir launafólk sé vaxtalækkun.  Mér finnst ekki eðlilegt að vextir af húsbréfum séu 5.1% + verðtrygging. Á samatíma eru vextir í Danmörku til húsnæðiskaupa einhvað svipaðir og enginn verðtrygging.  Það er útilokað að...
Sigurbjörn Halldórsson.

27. Október 2003

Þegar fólk hættir að þora í læknisskoðun

Hér á landi var nýlega stödd Suzanne Gordon, þekktur bandarískur blaðamaður , sem um áratugaskeið hefur rannsakað bandaríska heilbrigðiskerfið. Hún var hér í boði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og flutti fyrirlestra. Hún ræddi einnig við Svavar Knút Kristinsson, blaðamann á Morgunblaðinu. Í því viðtali var margt athyglisvert sagt...

26. Október 2003

Vindarnir eru að snúast

Birtist í Morgunblaðinu 25.10.2003
Á fimmtudag urðu stórpólitísk tíðindi í heiminum. Yfirstjórn bresku járnbrautanna ákvað eftir ítarlega rannsókn að þjóðnýta viðhald og viðgerðir á breska járnbrautarkerfinu. Þetta þýðir að átján þúsund starfsmenn færast frá einkafyrirtækjum til ríkisins. Þetta er niðurstaða ríkisstjórnar sem hefur lýst því yfir að hún sé ríkisstjórn einkarekstrar alls staðar þar sem því verði við komið. Þetta er ríkisstjórn sem hefur lýst því yfir að hún sé ekki sósíalísk ríksisstjórn...

23. Október 2003

Um ábyrgð Landsvirkjunar eða ábyrgðarleysi

Birtist í DV 22.10.2003
Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar skrifar grein í DV 17. október sl. sem ber heitið Ögmundur Jónasson og Kárahnjúkar. Greinin eru viðbrögð við blaðagrein sem ég skrifaði í DV fyrir skömmu þar sem ég sakaði Landsvirkjun um að hafa þjónað ríkisstjórninni í blindni og staðið á vafasaman hátt að útboðum við framkvæmdir við Kárahnjúka. Þorsteinn segir að talsmenn Landsvirkjunar hafi jafnan forðast að taka þátt í deilum um Kárahnjúka...

22. Október 2003

Kommar og jafnvel hommar

Það má í stuttu máli færa gild rök fyrir því að valdið hafi ætlað sér að “kaupa” skáldið, gera það að sínu, eða troða það niðrí svaðið með sama hrottaskap og reynt var að gera við Ljósvíkinginn sjálfan. Bréfabisnessinn er einn liður í þessum tilraunum. Hann skal niðrá hnén hvað sem það kostar. Því miður var það ekki þjóðin sem keypti Gljúfrastein og til allrar hamingju getur enginn keypt það skáld sem í stærð sinni skyggir á aðra menn. Ég spyr mig hins vegar Ögmundur hvar það fólk er sem skáldið tók upp í á lífsleið sinni...
Ólína

22. Október 2003

Hver á Laxness?

Mikil umfjöllun hefur orðið um bréfasafn Halldórs Laxness og aðgang að því. Í bréfi eða öllu heldur grein sem birtist hér neðar á síðunni veltir Ólína vöngum yfir ýmsum hliðum þessa máls. Hún spyr m.a.: "Hver á Laxness? Strangt til tekið er ekki hægt að spyrja svona séu menn að fjalla um bókmenntir skáldsins og ekki jörð í Flóanum eða fyrir austan. Bókmenntaverk hættir vitaskuld að vera eign höfundarins í vissum skilningi um leið og fólk les verkið og verður fyrir áhrifum af því, lætur hrífast með, eða skiptir kannski um skoðun í lífinu. Það á enginn...

22. Október 2003

Setningarræða 40. þings BSRB

Við höldum þetta þing undir kjörorðinu Réttlátir skattar – undirstaða velferðar. Með þessu viljum við undirstrika tvennt: Annars vegar minna á að til þess að geta rekið öfluga og góða velferðarþjónustu er þörf á að afla ríki og sveitarfélögum skatttekna og hins vegar viljum við leggja áherslu á hve mikilvægt er að það skattkerfi sem við búum við sé réttlátt – menn séu skattlagðir eftir efnum og ástæðum. BSRB hefur lagt mikla vinnu í að þróa nýjar hugmyndir í skattamálum.

21. Október 2003

Útvarp Reykjavík

Fagurt veður er um allt land og heiðskírt. Fréttaritari útvarpsins á Egilsstöðum sagði veðrið á Héraði minna sig á stöðu efnahagsmálanna, mikil kyrrð væri í lofti og alger heiðskíra. Samkvæmt hitamælinum í Valhöll var 10 stiga hiti í höfuðborginni klukkan sex í morgun og má það þykja gott ef tekið er mið af stöðu mála við stjórn borgarinnar...
Þjóðólfur

20. Október 2003

Þögnin um Kárahnjúka

Sæll Ögmundur
Ég las grein Þorleifs Óskarssonar um fjölmiðla. Hann minnist þar á Kárahnjúkavirkjun og litla umfjöllun og rannsókn fjölmiðlamanna á henni. Og það er til lítils að fjalla um umfjöllun fjölmiðla eftir á. Það sem er búið er búið. Eru kastljósþættir ekki 6 daga vikunnar allan ársins hring?
Pétur

19. Október 2003

Spegill, spegill herm þú mér...

Ögmundur. Hugsaðu þér einangraðan mann umkringdan grunnsigldum jámönnum. Hugsaðu þér svo að hann, miðpúnkturinn í þröngum fimm manna hópi, standi með spegil í hendi og fari um leið með gömlu þuluna: Spegill, spegill herm þú mér, hver kommi er í húsi hér? Og svo er alveg sama hvað hann lítur snöggt í Spegilinn, hann sér alltaf sína eigin spegilmynd, en myndin er ekki hann. Spegilmyndin er....
Ólína

18. Október 2003

Hver er þín ábyrgð?

Ég var að lesa grein þína um "Vörukynningur Samlífs." Það vakti furðu mína ekki síður en þína hve stórt hlutfall þjóðarinnar sér sig knúið til að kaupa sér sérstaka sjúkratryggingu. Ég sem hélt að við byggjum við eitt besta tryggingakerfi í heimi...
Gunnar G.  

18. Október 2003

Einn kommi er einum of margir

Vill útvarpsstjóri ef til vill fréttatíma sérhannaða fyrir þá Björn Bjarnason og Hannes Hólmstein, fréttatíma sem smellpössuðu inn í þeirra heimsmynd?  Þá gengi náttúrlega ekki að segja frá öllu, til dæmis því að Bandaríkjastjórn njóti ekki vinsælda í heiminum nú um stundir...

18. Október 2003

Um frjálshyggju, jafnaðarstefnu og óheillakrákur

Sæll Ögmundur
Í pistli á heimasíðu þinni spyrð þú mig: Ef þú værir ákafur frjálshyggjumaður, myndir þú þá ekki treysta Tony Blair ágætlega fyrir þínum hugsjónum?  Svar: Ég veit ekkert hvað ég mundi gera ef ég væri ákafur frjálshyggjumaður. Ég reyni að feta meðalveg milli frjálshyggju og jafnaðarstefnu og ég kann heldur vel við Tony Blair...
Kveðja,
Atli Harðarson

14. Október 2003

Hamfarir af mannavöldum en Ísland þegir

Af hálfu ísraelsku ríkisstjórnarinnar er nú sem fyrri daginn allt réttlætt með því að þjóðin eigi í stríði. Þetta gefi henni siðferðilegan rétt. En er það þá ekki á báða bóga? Hvað fannst okkur um andstæðinga hernáms nasista og vopnaða baráttu þeirra gegn ofbeldi þýska ríkisins á stríðsárunum? Hvorir skyldu nú eiga meira sammerkt með nasistum og hvorir fórnarlömdum  þeirra, Ísraelsmenn eða Palestínumenn? Hvað finnst ríkisstjórn Íslands um linnulausar sprengjuárásir á íbúðarhverfi í flóttamannabúðum? Hvers vegna þegir hún þunnu hljóði á meðan mannréttindin eru brotin á saklausu fólki? ...  

14. Október 2003

Kóngurinn, sprellarinn og ráðgjafinn

Nú kann vel að vera að ég sé eitthvað utan gátta í pólitíkinni þessa dagana, en erindið er sem sagt þetta: Er það rétt að Össur Skarphéðinsson sé óskoraður foringi stjónarandstöðunnar á þingi? Þetta heyrði ég í þættinum sunnudagskaffi á Rás 2 í síðastliðinn sunnudag. Stjórnandi þáttarins kallaði Össur...
Þjóðólfur  

14. Október 2003

Eru allir jafn sekir?

Birtist í Morgunblaðinu 13.10.2003
Þegar við látum hugann reika aftur í tímann veltum við því held ég flest oft fyrir okkur hvers vegna ekki urðu fleiri til að rísa upp og andæfa mestu og alvarlegustu glæpaverkum mannkynsins. Þá verða efst í huga útrýmingarbúðir nasista þar sem murkað var lífið úr milljónum gyðinga af vísindalegri yfirvegun og nákvæmni. Illvirkinn var þýska ríkið og morðin voru viðbjóðslegri fyrir þá sök að þau voru unnin af verkfræðingum og vísindamönnum á hvítum sloppum; mönnum sem fóru heim tíl sín á kvöldin, kysstu börnin sín og hlustuðu á skemmtiþátt í útvarpinu. Þarna liggur munurinn á milli tilfinningaverunnar...

14. Október 2003

Hver er afstaða ríkisstjórnarinnar til mannréttindabrota í Palestínu?

Birtist í DV 13.10.2003
Ljóst er að ástandið í Palestínu er löngu orðið geigvænlegt – en versnar þó enn. Undarlegt er hve dofinn heimurinn virðist vera gagnvart þeirri atburðarás sem við verðum nú vitni að. Eftir loftárásir ísraelskra sprengjuflugvéla á flóttamannabúðir Palestínumanna í Sýrlandi var haft eftir Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra Íslands, að hvorki Ísraelsmenn né Palestínumenn hefðu tekið skref í átt til friðar. Og orðrétt segir hann í Fréttablaðinu daginn eftir loftárásirnar...

14. Október 2003

Uppgjöf Morgunblaðsins?

Sæll Ögmundur.
Ég fagna því sem þú segir um Morgunblaðið því ég er eins og þú þeirrar skoðunar að Morgunblaðið eigi ríkari þátt í að gera okkur að heimsborgurum en við viljum kannski viðurkenna sem vildum sjá þúsund blóm blómstra í fjölmiðlaheiminum. Hef verið þessarar skoðunar í tuttugu ár, en ég sé í þessum efnum nokkrar blikur á lofti. Mér fannst endurskipulagning í stjórnkerfi Morgunblaðisins mislukkuð. Skiptingin í þriggja manna pólitískt, eða flokkspólitískt teymi...
Ólína

13. Október 2003

Tekið ofan fyrir Morgunblaðinu

Ég mun aldrei gleyma yfirlýsingu eins gamals frænda míns þegar hann lá banaleguna. Hann hafði verið mjög rauður í pólitík. Alla ævi hafði Mogginn verið hans höfuðandstæðingur í stjórnmálum og enn leit hann á að svo væri. En rámri röddu hvíslaði hann í eyra mér – vitandi að þar var á ferðinni pólitískur samherji – "ég held Ögmundur minn að ég sé búinn að gútera Morgunblaðið; ekki að ég sé sammála Mogganum í pólitíkinni, heldur vegna hins, að hann er náttúrulega íslenskt stórveldi...

11. Október 2003

Á ekki að veita Davíð og Halldóri áminningu?

Sæll Ögmundur!
Nú hefur öldungadeild ástralska þingsins veitt John Howard forsætisráðherra formlegar ávítur fyrir blekkingar hans í undanfara Íraksstríðsins. Mig langar til að spyrja þig hvort til greina komi að leggja fyrir Alþingi Íslendinga tillögu um...
Kveðja,
Haukur

11. Október 2003

"Þar er þörf á stærstu hugarfarsbreytingunni"

Í nýútkominni Veru er fjallað um kynbundinn launamun, Kristjana Stella Blöndal, aðstoðarforstöðumaður Félagsvísindastofnunar og Þorgerður Einarsdóttir, lektor í kynjafræðum við Félagsvísindadeild HÍ skrifa mjög athyglisverða grein um launamun kynjanna; leitað er álits hjá formönnum heildarsamtaka launafólks um hvað sé til ráða til að draga úr kynbundnum launamun og sagt er frá rannsóknaritgerðum um efnið. Í leiðara Veru gagnrýnir Elísabet Þorgeirsdóttir ritstýra blaðsins...

10. Október 2003

Eru Vinstri grænir til sölu?

Félagi Ögmundur.
Nú er þröngt í búi hjá okkur smáfuglunum enda ný yfirstaðin kaup á nánast öllu gróðavænlegu hér á landi. Eimskipafélagið og Flugleiðir eru flogin úr höndum mér og stærstu stjórnmálaflokkar landsins hafa einnig skipt um eigendur. Þá er enn einhver óskiljanleg stífla á sölu Landsímans og því leita ég til þín sem formanns þingflokks VG.Þannig er mál með vexti að...
Varði Straumfjörð

10. Október 2003

Eins og ekkert hafi í skorist!

Portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka neituðu í gær að vinna nema hópurinn allur fengi hlífðarfört. Um var að ræða skófatnað og ullarsokka eftir því sem fram kom í fréttum. Í frásögnum fjölmilðla í gær var svo að skilja að þessi vinnustöðvun, þetta verkfall starfsmanna "væri í samráði" við Impregilo! Óvenjluegt er að samkomulag náist á milli atvinnurekanda og verkamanna um að...

9. Október 2003

Í þjónustu ítalskra dóna

Komdu sæll Ögmundur.
Þeir sem nenna að setja sig inn í ráðslag forsvarsmanna og fulltrúa ítalska verkatakafyrirtækisins á austfirska hálendinu gagnvart verkamönnum komast fyrirhafnarlítið að því að þeir eru dónar uppá íslensku.  Meira að segja silkihúfur Landsvirkjunar hafa áhyggjur...
Ólína 

9. Október 2003

Írak, Palestína og svikin loforð

Sæll Ögmundur.
Arnar heiti ég og er 25 ára Eyfirðingur. Fyrst vil ég þakka þér fyrir baráttu þína og allra hjá VG, sem ég kýs að sjálfsögðu. Ykkar rödd er mikilvæg og ég treysti því að hún muni heyrast um ókomna tíð. Enda tel ég þig og Steingrím J. mælskustu menn þingsins. Nokkrar spurningar hafa þó brunnið á mér en það eru mál Íraks, Palestínu, svikin loforð ríksstjórnar (fleiri en 1 og fleir en 2). Það sem ég hef velt fyrir mér...
Arnar Gunnarsson

9. Október 2003

Syndaaflausn í Róm?

Komdu sæll Ögmundur minn.
Það er ekki að undra að formaður Framsóknarflokksins skuli vera kominn til Rómar. Þangað fóru menn fyrr á tíð til að fá syndaaflausn. Ég er ansi hrædd um að Halldór okkar Ásgrímsson þurfi að liggja lengi á hnjánum fyrir hönd Framsóknarflokksins áður en honum verður fyrirgerfið þetta...
Ljósmóðir

9. Október 2003

Logsuðugleraugun og lögfræðingar frá Mílanó

Ef dæma skal af þeim lesendabréfum sem mér hafa borist í dag þá er fólki heitt í hamsi út af framkomu Impregilo og samstarfsaðila við verkamenn á Kárahnjúkum. Fólk veltir greinilega fyrir sér þýðingu Rómargöngu Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra. Ljósmóðir spyr hvort hann sé að feta í spor fyrri tíðar manna og leita eftir syndaaflausn og Ólína veltir fyrir sér hvort ímynd Impregilo sé til umræðu í Róm enda hafi utanríkisráðherranum íslenska...

8. Október 2003

Flokkur í leit að fortíð

Sæll Ögmundur.
Nú er áratugur frá því alþýðuflokksmenn samþykktu með sjálfstæðismönnum og skoðanabræðrum þínum sumum hverjum, að upp skyldi tekið tveggja þrepa virðisaukaskattskerfi. “Matarskatturinn” sem svo var nefndur skyldi lækkaður. Ég nefni þetta nú af því samfylkingarmenn eru komnir af stað með kröfuna um 7% virðisaukaskatt á tilteknum neysluvörum. Ung ljón...
Ólína

8. Október 2003

Halldór ekki í mínu nafni

Ég ætla ekki að lýsa því hvað ég var ánægð að heyra orðaskipti ykkar Halldórs Ásgrímssonar í þinginu á mánudag. Ég er búin að fá yfir mig nóg af málflutningi hans þar sem hann leggur að jöfnu gjörðir Ísraels og Palestínumanna. Þess vegna fannst mér gott að heyra þín orð. Ekki er saman að jafna vel vopnum búnu hernámsliðinu annars vegar, og hins vegar Palestínumönnum, örsnauðum og vanbúnum til allra verka, sem auk þess hafa verið girtir af innan gaddavírsgirðinga! Það er alveg hárrétt hjá þér að Halldór Ásgrímsson heldur uppi nákvæmlega sama málflutningi og...
Kveðja,
Hafdís

7. Október 2003

Te kaffi og gegnsósa skór með stáltá

Sæll Ögmundur.
Áhugaverð greinin um teboð Óðins Jónssonar, þrautreynds dagskrárgerðarsmanns hjá Rás 2, og umhugsunarverð eins og fleira á ljósvakanum þessa dagana. Gagnrýni og gagnrýnin hugsun virðist á undanhaldi og huggulegheitin á uppleið. Hann yljar varminn frá valdinu þótt ekki sé það beint bundið við hjartaræturnar. Annars er það fleira en teboð sem vekur undrun. Um leið og haustar austur á landi, gránar í rót og kólnar, fennir jafnvel við Kárahnjúka, og vist verkamannsins gerist daufleg og vond þá sendir fréttaritari Sjónvarpsins og Rásar 2 pistla af svæðinu í stríðum straumum...
Ólína

7. Október 2003

Sjónvarpsstöðvar við Kárahnjúka

Starf fjölmiðlamanna er mikilvægt. Þeir miðla upplýsingum og hafa veruleg áhrif við að móta farveg þjóðfélagsumræðunnar. Eðlilegt er að störf þeirra séu undir smásjá og mikilvægt er að þeir kunni að taka gagnrýni á sín störf ekki síður en stjórnmálamenn og reyndar allir sem gegna trúnaðarstörfum í þjóðfélaginu. Ég vona að fjölmiðlamenn lesi af kostgæfni bréf Ólínu sem birtist hér á sðunni í dag. Hún kemur víða við en telur að fjölmiðlarnir standi seg ekki sem skyldi við Kárahnjúka...

6. Október 2003

BSRB býður upp á vatn

Um heim allan er um það deilt hvort einkavæða eigi vatnið. Þessar deilur fara fram á löggjafarsamkundum, í sveitarstjórnum og annars staðar þar sem ákvarðanir eru teknar...

5. Október 2003

Vara við einkavæðingu og vilja læra af Íslendingum!

Skyldu þau hafa fengið forskrift hjá Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um hvernig eigi að standa vörð um sameignir þjóðarinnar með sérstakri hliðsjón af  áformum ríkisstjórnarinar að einkavæða raforkugeirann og vatnið? Það er ekki laust við að tilhugsunin valdi depurð...

3. Október 2003

Ríkisstjórnin forgangsraðar

Fyrsta umræða um fjárlögin fór fram á Alþingi í dag. Sá háttur er hafður á að kynna þingmönnum úr stjórnarandstöðu ekki efnisatriði fjárlaga fyrirfram. Lítið ráðrúm gefst því til að fara í saumana á innihaldi frumvarpsins fyrir fyrstu umræðu. Hún er því dæmd til að vera almenns eðlis og nokkuð yfirborðskennd. Engu að síður fékk þingheimur innsýn í sálarlíf ríkisstjórnarinnar...

2. Október 2003

Utanríkisráðherra boðið í te

Óðinn Jónsson fréttamaður bauð utanríkisráðherra í spjall í  morgunsárið. Reyndar kom aldrei fram hvort Óðinn bauð upp á kaffi eða te. Kannski var það bara ég sem fékk það á tilfinninguna að um teboð væri að ræða. Komið var víða við en þó fyrst og fremst rætt um tilraun ríkisstjórnar lands vors að fá sæti í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði að tilgangurinn með því væri fyrst og fremst...

2. Október 2003

Jónas Ingimundarson býður til veislu

Að lokinni setningu Alþingis í gær héldu þingmenn og starfslið þingsins suður í Kópavog. Í tónlistarhúsinu þar hafði Jónas Ingimundarson boðið til tónleika með nokkrum helstu stórsöngvurum þjóðarinnar. "Það er fólk eins og þetta, sem gerir okkur að þjóð", sagði Jónas og vísaði þar jafnt til tónsmiða frá fyrri tíð söngvaranna sem stóðu á senunni...

2. Október 2003

Hvort viltu samtryggingu eða einkatryggingu?

Birtist í Fréttablaðinu 30.09.2003
Nú ætla ég ekki að fella neinn áfellisdóm yfir tryggingafélaginu Samlíf, síður en svo. Fyrirtækið er einfaldlega að gera það sama og tryggingafyrirtæki af þessu tagi gera um heim allan. Spurningin sem við hins vegar stöndum frammi fyrir sem þjóð er áleitin. Ef við veikjum stoðir þess samhjálaparkerfis sem lýst er hér að framan þá höfum við fengið sterka vísbendingu um hvað tekur við...

30. September 2003

BSRB og réttindabaráttan

Birtist í Morgunblaðinu 29.09.2003
Við samningaborð hafa fulltrúar launafólks iðulega fundið fyrir viljanum til að taka almannaróm á orðinu og jafna kjörin – niður á við. Ef það yrði ofan á væri illa komið. Samtök launafólks eiga að bindast jákvæðu bandalagi, fagna ávinningi hvers annars og þoka þannig öllum upp á við...

30. September 2003

Einkavæðingin segir til sín í raforkugerianum

Í sumar hafa raforkumálin verið ofarlega á baugi. Að garði hefur borið erlenda gesti sem varað hafa við einkavæðingu raforkunnar. Vísað hefur verið til illra afleiðinga slíkrar stefnu í Kaliforníu, í ýmsum Evrópuríkjum, nú síðast Ítalíu að ógleymdum grannlöndum okkar, Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Í kjölfar markaðsvæðingar hefur raforkuverðið þar snarhækkað, ekki síst á álagstímum, vegna þess fyrirhyggjyleysis sem sókn í skjótfenginn gróða veldur. Ekki er séð fyrir varaforða þannig að kaupa þarf raforku annars staðar frá dýrum dómum þegar eftirspurnin verður mikil. Á vefriti  bendir Rúnar Sveinbjörnsson á að...

27. September 2003

Blöndal og bankarnir

Ég spurði hvort bankarnir ættu ekki að senda viðskiptamönnum sínum til margra ára bréf upp á svona nokkuð svo að þeir gætu breytt í samræmi við það. Afsakandi svar þjónustufulltrúans var: bankarnir mega það ekki, þeir mega ekki skipta sér af því hvaða ávöxtun fólk velur sér! Þetta kalla ég að fara illa með annarra manna fé. Skyldu forsvarsmenn lífeyrissjóðanna, sem sýsla með annarra manna peninga rétt eins og bankarnir, starfa eftir sömu reglum? Kemur þeim það bara ekkert við hvernig þeir fara með annarra manna fé? Pétur H. Blöndal á eflaust...
Kveðja, R. Árnason

27. September 2003

Hver er ábyrgð ríkisstjórnar og Landsvirkjunar?

Birtist í DV 26.09.2003
Landsvirkjun fylgdi greinilega þeirri línu ríkisstjórnarinnar að allt væri til vinnandi að keyra kostnaðarverðið niður – tímabundið ef ekki vildi betur,  til að láta líta svo út að framkvæmdin fengi staðist. Þetta varð hins vegar til þess að ábyrg fyrirtæki í nágrannalöndunum urðu framkvæmdinni fráhverf enda hér um að ræða  atferli  sem gjarnan er kennt við sum lönd í öðrum álfum...

25. September 2003

Utanríkisráðherra á aldrifinu í New York

Greinilegt er að nú mæðir mikið á hnjánum á brókum utanríkisráðherra sem staddur er á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Morgunblaðið greinir frá því hvernig hann eltir ráðamenn í Bandaríkjunum á röndum í því skyni að halda eftir leifunum af bandaríska hernum á Miðnesheiði. Þeir fá hvergi frið...
Þjóðólfur

24. September 2003

Ræðst við á götuhorni

Maður stöðvaði mig á götuhorni í dag og kvaðst hafa hlustað á samræður okkar Péturs H. Blöndals alþingismanns í Kastljósi Sjónvarps í gær. Þar hefði Pétur haldið því fram eina ferðina enn, að ef fólk væri ekki að sýsla með eigin fjármuni...

23. September 2003

Vörukynninig Samlífs

Merkileg frétt var í Sjónvarpinu í gærkvöldi: Fram kom að meira en helmingur Íslendinga á aldrinum 16 til 75 ára hefur keypt líftryggingu og um 40% eru sjúkdómatryggðir. Í fréttinni var tekið fram að hver tryggingarþegi er metinn sérstaklega og þá horft til sjúkdómssögu viðkomandi  Allt er þetta rakið í fréttinni og í framhaldinu segir fréttamaður...

21. September 2003

Almannaútvarp í þágu lýðræðis

Erindi á ráðstefnu NORDFAG í Munaðarnesi
Á nýafstöðnu þingi Starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsstöðvanna á Norðurlöndum (NORDFAG) var samþykkt ályktun þar sem áhersla var lögð á að efla útvarp í almannaeign. Ríkisútvarp þjónaði lýðræðinu ef það fengi að starfa sjálfstætt og á faglegum forsendum. Þetta voru skilaboð ráðstefnunnar...

17. September 2003

Eru rökvísar konur ekki kvenlegar?

…eða á að spyrja á hinn veginn, hvort kvenlegar konur séu ekki rökvísar? Um síðustu helgi birtist í Morgunblaðinu örstutt frétt undir fyrirsögninni, Karlar kvenlægari en konur. Þar segir frá meistaraprófsritgerð Önnu Guðrúnar Edvardsdóttur. Um niðurstöður ritgerðarinnar segir í frétt Morgunblaðsins...

17. September 2003

Það sem Svíar raunverulega meina

Birtist í Fréttabladinu 15.09.2003
Svíar eru nýbúnir að hafna Evrunni í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það var í sjálfu sér athyglisvert og fellur inn í nokkuð merkilegt mynstur: Nánast allt stofnanaveldið í tilteknu landi mælir með því við þjóðina að hraða Evrópusamrunanum en meirihluti þjóðarinnar segir hins vegar nei...

17. September 2003

Páll H. Hannesson skrifar: Sigurvegarar í Kankún?

Hvernig á að túlka niðurstöður ráðherrafundar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Kankún í Mexikó? Töpuðu allir eða eru einhverjir sigurvegarar? Samningaviðræðurnar sigldu í strand af því að...

17. September 2003

"Engir samningar eru betri en slæmir samningar "

Þetta varð mottó þróunarríkjanna í Kankún. Í grein í frjálsum pennum í dag greinir Páll H Hannesson nýafstaðinn fund Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Kankún. Þar veltir hann upp ýmsum athyglisverðum flötum og telur ekki útilokað að ýmsilegt jákvætt komi út úr fundinum...

11. September 2003

Forstjóri Stöðvar tvö hafi það sem sannara reynist

Birtist í Fréttablaðinu 10.09.2003
Ég efast ekki um að Stöð tvö er að fara í gegnum miklar þrengingar og staða forstjóra fyrirtækisins er án efa ekki öfundsverð. Hann bætir hana hins vegar ekki með því að fara með rangar fullyrðingar. Vonandi mun hann bera gæfu til þess að haga málflutningi sínum á heiðarlegri hátt en hann gerir í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag...

9. September 2003

Þakklátur talsmaður ríkisstjórnar

Halldór Ásgrímsson er þakklátur maður. Hann hefur nú, væntanlega fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, fært  ítölsku verktökunum Impregilo sérstakar þakkir enda er hann þeirrar skoðunar “að það sé mikilvægt að hið jákvæða komi fram…”

6. September 2003

Veit Alþýðusamband Íslands hvert förinni er heitið?

Birtist í Morgunblaðinu 05.09.2003
Alþýðusambandið hefur sett fram kröfu um bætt lífeyrisréttindi félagsmanna sinna. Í kröfum sínum vísar ASÍ til réttinda opinberra starfsmanna. Allt er þetta skiljanlegt, eðlilegt og réttmætt ef ekki væri sá tónn í málflutningnum að hinir síðarnefndu væru í raun oftryggðir. Nú hefur það gerst að ASÍ hefur vísað kröfum sínum til umboðsmanns Alþingis. Þar heldur verkalýðshreyfingin inn á braut sem ekki verður séð fyrir endann á...

4. September 2003

Til hvers fjárfesta menn í sjónvarpsstöð?

Birtist í Fréttablaðinu 03.09.2003
Um daginn birtist frétt í Fréttablaðinu undir fyrirsögninni Stórfiskar án starfa og mynd af sex valinkunnum fréttamönnum. Athygli vakti að engin kona var í hópnum. Hins vegar hefur verið staðfest, og var skilmerkilega greint frá því í þessari frétt, að nokkrar fréttakonur á Stöð tvö hefðu einnig misst vinnuna, Bryndís Hólm, Margrét Stefánsdóttir og Ólöf Rún Skúladóttir. Síðan kom frétt um það á mánudag að Hulda Gunnarsdóttir væri einnig í þessum hópi.

1. September 2003

Ólafur í skýjunum

Nýverið þáði forseti Íslands boð um að ferðast í einkaþotu frá Rússlandi til Englands til að horfa á fótboltaleik með milljarðamæringnum Roman Abramovits, landstjóra í Chukotska í Rússlandi og eiganda fótboltaklúbbsins Chelsea. Í fréttum af heimsókn Ólafs Ragnars til Chukotska kom fram...
Þjóðólfur

31. Ágúst 2003

Miklu betra en í Krossinum!!

Ævinlega blessaður Ögmundur minn.
Þú gefur í skyn að það sé eitthvað sambærilegt að vera í Krossinum og Sjálfstæðisflokknum. Þessu mótmæli ég enda þekki ég báða þessa hópa af eigin raun og veit að það er miklu, miklu skemmtilegra að vera í Sjálfstæðisflokknum. Kemur þar margt til...
Björn Guðlaugur

31. Ágúst 2003

Hvernig má tryggja sjálfstæði fjölmiðla?

Talsverð umræða hefur orðið í kjölfar uppsagna á Stöð tvo. Slæmt er að sjá á eftir mörgu góðu fólki þaðan úr starfi – alla vega í bili. Á síðum blaðanna hefur verið rætt um tengsl fjármagns og fréttamennsku og í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld bar einmitt þetta á góma. Þar voru mættir í boði Elínar Hirst þeir Árni Snævarr, Jónas Kristjánsson og Magnús Hreggviðsson...

29. Ágúst 2003

Til varnar tjáningarfrelsi

Birtist í DV 28.08.2003
Stöð tvö er fyrirtæki sem lýtur stjórn eigenda sinna. Samkvæmt því er þeim í sjálfsvald sett hver er ráðinn og hver er rekinn. Og nú hafa þeir rekið Árna Snævarr, fréttamann. Látið hefur verið í veðri vaka að hann hafi ekki sýnt eigendum sínum trúnað. Hann er sagður hafa upplýst þegar þessir sömu eigendur reyndu að hafa afskipti af fréttum stöðvarinnar. Ekki heyrist mér á fréttaviðtölum að Árni Snævarr skrifi upp á að svo hafi verið. Tilefnið voru fréttir af laxveiðum - það kemur þessu máli hins vegar ekki við fremur en hver lak hverju og í hvern. Alvarlegast er að fréttamaður er rekinn úr starfi fyrir að vilja verja sjálfstæði fréttamanna.

26. Ágúst 2003

Góðæri

Birtist í Morgunblaðinu 25.08.2003
Þessa dagana er hagnaður bankanna til umræðu í fjölmiðlum. Fram eru reiddar samanburðartölur þar sem annars vegar er sýndur hagnaður eftir skatta á fyrri hluta árs 2002 og hinsvegar samsvarandi tölur fyrstu 6 mán. 2003...

26. Ágúst 2003

Rafmagnsleysi í Bandaríkjunum

Ég hef fylgst með vandræðagangi Banaríkjamanna vegna rafmagnsleysis þar vestra. Augljóst er að þar er verið að reka kerfi á fullum afköstum og gott betur. Flestar veitur eru einkareknar og einungis hugsað að mjólka sem mest út úr þeim handa eigendum. Peningar til uppbyggingar er skornir við nögl. Þannig að þegar ein lína eða stöð dettur út, hrinur allt kerfið. Langan tíma tekur að koma á rafmagni að nýju, bæði vegna fjölda veitna, ágreinings og yfirálags á kerfinu. Er þetta ekki eitthvað til að læra af fyrir okkur Íslendinga? Eru nýju raforkulögin ekki orðin úrelt áður en þau taka gildi?...
Rúnar Sveinbjörnsson

25. Ágúst 2003

Áfram Kristmennn Krossmenn

Sæll Ögmundur
Ég var að lesa pistilinn þinn frá 22/8, Einsog í Krossinum, um krossmenn samtímans. Við lesturinn varð ég svo innblásinn að ég lagfærði aðeins einn gamlan sálm svo hann hæfði betur stað og stund...
Kveðja,Eiríkur

25. Ágúst 2003

Vöndum val á vinum

Án efa er oft úr vöndu að ráða fyrir forseta Íslands þegar gestir sækja okkur heim eða þegar þjóðhöfðinginn þiggur heimboð annarra. Varla ræður hann þá dagskránni. Ég get mér þó til að hann geti að einhverju leyti haft áhrif, t.d. hvort þegið skuli boð um að ferðast í einkaþotu frá Rússlandi til Englands til að horfa á fótboltaleik...

22. Ágúst 2003

Einsog í Krosssinum

Já, Herra minn og lausnari! Það er ekki að undra að mörgum þyki þetta minna á alhörðustu trúarsöfnuði. Þegar ég kom að ágætum manni að lesa þennan vikugamla Mogga leit hann upp og sagði, hér eru engin rök færð fyrir veru hersins frekar en fyrri daginn. Hér er bara trú. Þeir vitna. Þetta er einsog í Krossinum... 

21. Ágúst 2003

Halldór taki sjálfan sig á orðinu

Formaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson, flutti ræðu á Hólahátíð um síðustu helgi. Hann gerði samhjálp og samkennd að umræðuefni og lagði áherslu á að varðveita samheldni í samfélaginu. Þetta eru tónar sem ég kann vel að meta. Mín tillaga er sú að Halldór Ásgrímsson láti ekki hér við sitja...

21. Ágúst 2003

Aðalatriðin og aukaatriðin í máli Ólafs Barkar

Mér hefur alltaf þótt sem sumir landar mínir festist í smáatriðum í stað þess að horfa á heildarmyndina. Þessi veikleiki birtist einkar vel í fjaðrafokinu núna um nýskipaðan hæstaréttardómara, Ólaf Börk Þorvaldsson. Fáeinir óbilgjarnir menn einblína á þá tilviljun að Ólafur er systursonur forsætisráðherra – telja sem sagt að það komi ráðningunni eitthvað við og að þessi skyldleiki geti jafnvel sett eitthvert kusk á þrískiptan valdaflibba okkar ágæta þjóðfélags...
Með kveðju,
Jón Bisness

20. Ágúst 2003

Tillaga um sýningu fyrir Gallerí Landsvirkjun!

Landsvirkjun hefur staðið fyrir ötulu sýningarhaldi á starfsemi sinni á undanförnum árum og einnig gert vel við myndlistarmenn þjóðarinnar með því að skapa þeim sýngaraðstöðu í stöðvarhúsum sínum. Tugþúsundir landsmanna hafa notið framtaks Landsvirkjunar, fræðslu, listrænna viðburða og veitinga. Nýjasta kynningarframtak fyrirtækisins er í Végarði í Fljótsdal en þar hefur það komið á fót þrívíddarsýningu um fyrirhugaða Kárahnjúkavirkjun. Allt er þetta gott og gilt og vona ég að Landsvirkjun haldi ótrauð áfram í kynningarstarfsemi sinni og sýningarhaldi fyrir landsmenn. Vel væri til að mynda þegin sýning á...
Þjóðólfur

16. Ágúst 2003

Björgólfur sýnir Kjarval

Að öllu leyti þykir mér koma fram meiri ábyrgð í afstöðu Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs og jafnframt eins af aðaleigendum Landsbankans, en á sínum tíma kom fram hjá bankamálaráðherranum Valgerði Sverrisdóttur. Á Alþingi var hún spurð hvort mat hefði verið lagt á listaverkaeign Landsbankans...

15. Ágúst 2003

Frú eða fröken doktor?

Ég fylgdist með kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi þar sem Hr. cand. jur. Davíð Oddsson forsætisráðherra var spurður spjörunum úr um öryggismál þjóðarinnar. Hann sagði frá samtali sínu við þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjaforseta, dr. Condoleezzu Rice, enda var það höfuðatriði málsins í hans huga. Símleiðis og í eigin persónu hafði hún fullvissað forsætisráðherra um að hann gæti sofið rólegur næstu mánuðina...
Með bestu kveðju,
Þjóðólfur

15. Ágúst 2003

Davíð lætur engan ósnortinn

Davíð Oddsson, forsætisráðherra hefur greinilega ekki látið lesendur þessarar síðu ósnortna þegar hann birtist á sjónvarpsskjánum til að lýsa sigrum sýnum á vettvangi alþjóðastjórnmála, sbr. bréfin frá þeim Þjóðólfi og Hafsteini Orra. Sigurinn fólst í því að koma Bandaríkjamönnum í skilning um að vera hersins á Íslandi snýst ekki um hvað nauðsynlegt er...

14. Ágúst 2003

Hvers vegna fáum við ekki að heyra sannleikann?

Birtist í Morgunblaðinu 13.08.2003
Það væri fróðlegt að heyra Eamonn Butler og félaga hjá Adam Smith Institute, útlista hvernig þeir ætla að stórhækka laun en jafnframt ná 20%-40% sparnaði í starfsemi þar sem launin vega 70% af rekstrarkostnaði. Í Morgunblaðsviðtalinu vísar Eamonn Butler á stjórnunarvanda ... Á að bera þetta á borð fyrir starfsmenn íslensku heilbrigðisþjónustunnar? Heldur dr. Eamonn Butler að starfsfólk íslenskra sjúkrastofnana sé að snyrta á sér neglurnar í vinnunni?

14. Ágúst 2003

Verslunarráðið vísar veginn

Birtist í DV 13.08.2003
Er það gefið að samfélagslegt átak sé alltaf af hinu illa fyrir "fólkið sjálft"? Getur verið að þegar frjálshyggjumenn tala um "fólkið sjálft", á þennan hátt, þá sé skilgreining þeirra nokkuð þröng? Að "fólkið sjálft" rúmist kannski í sæmilega góðum fyrirlestrasal hjá Verslunarráði Íslands?

14. Ágúst 2003

Aðalatriði í hermáli

Í morgunfréttum fengum við að heyra niðurstöðuna, alla vega til bráðabirgða. Herflugvélarnar verða hér áfram. Að vísu virtist aðalatriði málsins vera hver hringdi í hvern. Condoleezza Rice, öryggismálafulltrúi Bandaríkjaforseta, hringdi í Davíð Oddsson og Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Halldór Ágrímsson. Þetta vitum við að þeim báðum þykir vera mikið aðalatriði í málinu...

14. Ágúst 2003

Ég bara hló

Ég leyfi mér að gagnrýna fjölmiðlana fyrir að taka í mál að hlusta á kröfur Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar um að mæta aðeins einir í viðtöl. Það er augljóst að þeir treysta sér ekki til að mæta andstæðingum sínum í pólitíkinni. Ef þeir halda áfram að gera þessar kröfur þá væri nær að hætta að láta þá mæta í Kastljós, senda þá bara til Gísla Marteins. Þar geta þeir barið sér á brjóst og fengið að hlæja og brosa. Jafnvel taka lagið...
Hafsteinn Orri

13. Ágúst 2003

Réttindabarátta samkynhneigðra

Hinsegin dagar eru að verða fastur liður í sumardagskrá landsmanna og mælast vel fyrir. Í litskrúðugri fjöldagöngu skemmtir fólk sér og sýnir jafnframt hug sinn til mannréttindabaráttu samkynhneigðra. Ekki hef ég heyrt nokkurn mann agnúast út í þennan atburð. Þvert á móti er alls staðar jákvæðni að finna. Ekki efast ég þó um að víða leynast fordómar í garð samkynhneigðs fólks og fékk ég staðfestingu á því á fundi Samtakanna ´78 fyrir síðustu Alþingiskosningar...

12. Ágúst 2003

Jöfnuður skiptir máli

Morgunblaðið á lof skilið fyrir að birta athyglisverðar erlendar greinar sem varpa ljósi á málefni líðandi stundar. Síðastliðinn laugardag var birt grein eftir Joseph Stiglitz, handhafa Nóbelsverðlaunanna í hagfræði árið 2001 og fyrrverandi varaforseta Alþjóðabankans. Hann hefur ítrekað sett fram gagnrýni á stefnu bankans og í þessari grein, sem ber heitið Lýðskrumarar hafa stundum rétt fyrir sér, varar hann við aðilum, sem reyni að gera lítið úr félagslegum sjónarmiðum...

10. Ágúst 2003

LÍU krefst réttlætis

Sjónvarpsfréttir laugardaginn 9. ágúst árið 2003 eiga eftir að verða mörgum eftirminnilegar. Þetta var fréttatíminn, sem formaður LÍÚ gerði þjóðina endanlega kjaftstopp. Í fyrsta lagi var svo að skilja á Kristjáni Ragnarssyni, að hann teldi smábátaveiðar almennt til óþurftar, og blési þar með á allt sem heitir vistvænar veiðar. Maður fékk á tilfinninguna að fremur vildi hann togara en smábáta uppí landsteinana. Látum þetta þó vera, því það var ekki fyrr en Kristján gerði réttlætið að umræðuefni að menn misstu kjálkann niður á bringu...

9. Ágúst 2003

Má ég kæra olíufélögin?

Sæll Ögmundur.
Spurnig um verðsamráð olíufélaganna. Hef ég rétt á því að kæra olíufélögin vegna verðsamráðsins? Ég hef ekið um 300.000 kílómetra síðan lög um verðsamráð voru samþykkt árið 1993? Einnig varðandi skýringar ríkislögregæustjóra. Hefur hann dómsvald? Hvað á hann við þegar hann segir að það sé ekki hægt að dæma mann tvisvar fyrir sama glæpinn ? Var einhver að biðja hann um að dæma í málinu?
Kveðja, Andrés Kristjánsson

8. Ágúst 2003

Minnst spilling á Íslandi í öllum heiminum?

Ríkisútvarpið hefur tekið upp þá nýbreytni að heyra skoðanir stjórnmálamanna í yngri kantinum í Speglinum að loknum fréttum tiltekna daga vikunnar. Að sumu leyti var ég sammála Bjarna Benediktssyni, Sjálfstæðisflokki sl. þriðjudag þegar hann sagði, að þeim stjórnmálaflokkum sem lofuðu opnu bókhaldi bæri skylda til að standa við fyrirheit sín. Þegar hins vegar kom að nánari útleggingum og vangaveltum um spillingu skildu með okkur leiðir...

8. Ágúst 2003

Kókdósin við Borgarnes

Getur verið að við eigum eftir að venjast kókdollunni við Borgarnes? Getur verið að eftir nokkur ár fari okkur að þykja vænt um gömlu góðu kókdósina að Hamri?
Ég held ekki....

7. Ágúst 2003

Hvað viljum við í Öryggisráð SÞ?

Birtist í Fréttablaðinu 06.08.2003
Á sínum tíma tókum við ákvarðanir um stækkun fiskveiðilögsögunnar þvert á ríkjandi skoðun í heiminum og höfðum þann árangur að gerbreyta viðhorfum manna til nýtingarréttar og fiskveiðistjórnunar. Þetta sýndi að með samtakamætti og trú á málstað getur lítil þjóð fengið ýmsu áorkað. Í kjölfar Þorskastríðanna var stundum haft á orði, að svo harðdrægir hefðu Íslendingar reynst, að forsjóninni væri fyrir að þakka að þeir væru ekki fjölmennari en raun ber vitni. Þá fyrst yrðu þeir varasamir þegar þeir kæmust í tölu milljónaþjóða. En dugnaður og eftirfylgni er síður en svo slæm, allt er undir því komið hver málstaðurinn er, sem barist er fyrir.

7. Ágúst 2003

Stríðið sem á að borga sig

Það er allfaf fengur að fá pistla Magnúsar Þorkels Bernharðssonar, sem hann hefur góðfúslega veitt leyfi til að birta hér á heimsíðunni. Magnús Þorkell er sérfræðingur í málefnum Mið-austurlanda og fjallar þess vegna af mikilli þekkingu og yfirsýn um mál sem tengjast þessum heimshluta. Í gær birtist nýjasti pistill Magnúsar Þorkels og fjallar hann þar m.a. um þá erfiðleika sem hernámsliðið í Írak á við að stríða. Einnig víkur hann að hraðvaxandi kostnaði Bandaríkjanna vegna hernaðarins í Írak. Hann vísar í vefslóðir...

6. Ágúst 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Kraumar undir í Írak

Pistill 5. ágúst 2003
Enn eru árasir á bandaríska hermenn. Þær  eiga ser stað aðallega í mið-hluta Íraks þar sem sunnita arabar búa, sem voru valdamestir undir stjorn Baath flokksins. Þessar árasir eru að verða skipulagðari og virðast til þess gerðar, meðal annars, að ögra bandarisku hermönnunum og jafnvel etja þeim út í átök. En þetta á sér ekki stað einungis á svæðum súnníta...

6. Ágúst 2003

Hugsjónaeldar loga

Ungt fólk í stjórnmálum hefur látið að sér kveða að undanförnu, hver hópur með sínum hætti. Fróðlegt er að virða fyrir sér hugsjónabálin því þar má sjá hvað ungt fólk telur brýnast að berjast fyrir. Ungir Vinstri grænir hafa hvatt til varðstöðu um sjálfstæði þjóðarinnar, krafist jafnréttis kynjanna og stungið niður penna um þau mál sem brenna á þjóðinni. Þar vil ég sérstaklega nefna margar mjög athyglisverðar greinar Katrínar Jakobsdóttur, formanns UVG, sem birst hafa í sumar um mennta- og kjaramál. Ungir Samfylkingarmenn sýndu lofsverð tilþrif þegar þeir skrifuðu páfa um mannréttindi samkynhneigðra. Einsog jafnan á þessum tíma árs hafa ungir sjálfstæðismenn  nokkuð látið til sín taka í umræðu um kjaraleynd en stöku maður úr þeirra röðum hefur einnig vikið orði að brennivíni...

2. Ágúst 2003

Forsætisráðherra vill heimshreinsun

Birtist í DV 31.07. 2003
Mánudaginn 21. maí skrifar Geir R. Andersen, gamalgróinn fjölmiðlamaður á DV, brýningargrein í blað sitt um Íraksstríðið. Nú sé hætta á því að Evrópa "kikni í hnjáliðunum" gagnvart gagnrýnendum þeirra Bush og Blairs. "Sagan er að taka nýjan kúrs, hún hefði ekki fyrirgefið þeim að taka ranga ákvörðun", segir Geir. Að hans mati hefðu þeir félagar, Bush og Blair, brugðist ef þeir hefðu ekki látið til skarar skríða gegn Írak. Ekki þurfti Geir R. Andersen að bíða lengi eftir að skoðanabróðir og liðsmaður sama málstaðar léti til sín heyra. Sá maður heitir  Davíð Oddson og er forsætisráðherra Íslands. Honum var mikið niðri fyrir í stórviðtali við DV um síðustu helgi, enda dugðu honum ekki minna en tvær opnur til að tjá viðhorf sín. Nánast í hverri málsgrein voru útúrsnúningar og rangfærslur...

27. Júlí 2003

Davíð Oddsson og símasnúran

Vísindin skýra ýmis tilbrigði í mannlegri hegðan í ljósi atvika sem hafa haft mikil áhrif á sálarlíf okkar, iðulega í bernsku. Svo er þó að skilja að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi verið búinn að slíta barnsskónum þegar hann varð fyrir reynslu sem greinilega hefur haft djúpstæð áhrif á hann. Frá þessu greinir hann í mjög opinskáu og einlægu viðtali við DV nú um helgina. Á hispurslausan hátt segir hann...

25. Júlí 2003

Björn Bjarnason setur heimsmet

Birtist í Fréttablaðinu 24.07. 2003
Björn Bjarnason stýrir Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu sem kunnugt er. Ekki veit ég hvernig verkaskipting er innandyra í ráðuneytinu, en ég gef mér að hermálin, ef til kæmi, yrðu dómsmálaráðuneytismegin. Fyrirgefning syndanna myndi hins vegar að öllum líkindum falla undir kirkjumál. Á hvoru tveggja sviðinu hefur Björn látið til sín taka að undanförnu. Hann vill stofna íslenskan her með myndarlegu aðalliði og yfir tuttugu þúsund manna varaliði. Hinn þátturinn í málatilbúnaði Björns, sem varðar syndaaflausnina, snýr að samráði olíufélaganna um olíuverð.

25. Júlí 2003

Magnús Þorkell Bernhardsson skrifar: Er Írak að breytast í Líbanon?

Irak Pistill - 25 Juli 2003
Það er orðið nokkuð langt síðan að ég skrifaði ykkur síðast en þar með er ekki sagt að það hafi verið tíðindalaust á vígstöðvunum í Írak. Þvert á móti fer ástandið síversnandi og sumir segja að borgarastyrjöld sé í uppsiglingu.

25. Júlí 2003

Hver verður framvindan í Írak?

Æðstu menn Bandaríkjanna og Bretlands fögnuðu því mjög ákaft þegar synir Saddams Husseins, þeir Udday og Quasy, voru skotnir til bana í vikunni. Einhvern tímann hefðu forsvarsmenn þessara ríkja sagt að þeir hörmuðu að mennirnir hefðu verið drepnir án þess að áður hefði verið réttað í máli þeirra. Það ættu að vera grundvallarreglur réttarríkis. Slikum viðhorfum er ekki að heilsa nú. Menn eru skotnir á færi við fagnaðarlæti æðstu stjórnenda í okkar heimshluta. Í dag birtist hér á heimasíðunni nýr pistill frá Magnúsi Bernharðssyni...

25. Júlí 2003

Björn Bjarnason á Kaldastríðsklæðum

Þeir sem komnir eru á miðjan aldur vita að áður en Björn Bjarnason alþingismaður var kjörinn á þing var hann blaðamaður á Morgunblaðinu. Þar sérhæfði hann sig í erlendum málefnum, en sérstakt áhugasvið hans voru samskipti Vesturveldanna og Sovétblokkarinnar. Það má segja með nokkrum sanni að Kalda stríðið hafi verið sérsvið Björns Bjarnasonar. Það er ef til vill þess vegna sem Björn virðist alltaf vera í essinu sínu þegar þessi mál ber á góma...

24. Júlí 2003

Forsætisráðherra leggur gátu fyrir þjóðina

Forsætisráðherra efndi til fundar með fréttamönnum í gær til að ræða um aðskiljanleg efni: Framtíð bandarísku herstöðvarinnar á Suðurnesjum, olíufélagssamráðið, umdeilda málsmeðferð bandaríska hermannsins og fleira sem hátt hefur borið í fjölmiðlum. Allt þetta hefur verið rækilega tíundað í fjölmiðlum í dag. Sérstaka athygli vakti að Davíð Oddsson kaus að láta ekki uppi á hvern hátt hann skilgreindi varnarþörf Íslands, nokkuð sem ríkisstjórnin hefur verið krafi svara um. Þess í stað lagði hann fyrir okkur gátu. Hún er á þessa leið...

23. Júlí 2003

Þriðja-leiðin er alvöru stjórnmálastefna hægri krata

Síðastliðinn mánudag skrifar Guðmundur Andri Thorsson pistil í Fréttablaðið undir fyrirsögninni Fall Tony Blair. Pistillinn er skemmtilegur aflestrar eins og við var að búast frá Guðmundi Andra og er ég sammála honum um flest. Þó er ég ósammála um eitt grundvallaratriði sem þar kemur fram. Það er reyndar svo veigamikið að mér finnst skipta máli í pólitískri umræðu samtímans að vekja á því máls.

22. Júlí 2003

Fórnarlömbin

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ríður ekki við einteyming þessa dagana. Ekki er nóg með að ólmur vilji hann koma gömlum draumi sínum um íslenskan her til framkvæmda, heldur er hann einnig kominn á kaf í umræðuna um samráð olíufélaganna...

19. Júlí 2003

Nefndarformaður á Alþingi tjáir sig um mannréttindi

Það er gott til þess að vita að til skuli vera menn sem alltaf eru reiðubúnir að taka upp hanskann fyrir þá sem misrétti eru beittir; reiðubúnir að berjast í þágu tjáningarfrelsis og helgustu mannréttinda. Það er staðreynd að víða í heiminum er pottur brotinn, spilling þrífst og er okkar land því miður ekki undanskilið – nema síður sé. Þeir sem vilja fletta ofan af spillingu eiga þakkir skilið og ef einhver vill leggja stein í götu þeirra, þá vinnur sá gustukaverk sem færir þann stein úr vegi. Í gær kynnti Sjónvarpið í upphafi frétta að rætt yrði við slíkan mann...

18. Júlí 2003

En ef hún hefði verið dóttir Saddams Husseins?

Ég er búinn að gleyma því hvað tónlistarmaðurinn hét sem ætlaði að halda konsert í Vín, eða var það Búdapest, og gerði þá "sjálfsögðu kröfu" að smíðaður yrði bar baksviðs nákvæmlega eins og barinn var á hótelinu sem hann bjó á og "hafði tekið ástfóstri við". Þetta þótti mjög sniðugt og ofur eðlileg krafa, að maðurinn vildi vera í samræmdu umhverfi. Í fréttum Sjónvarps í kvöd fengum við fréttir af ...

16. Júlí 2003

Einar Karl og William Blum

Birtist í Fréttablaðinu 15.07. 2003
Einar Karl Haraldsson varaþingmaður Samfylkingarinnar hefur látið nokkuð að sér kveða að undanförnu í umræðunni um "varnarmálin". Mörgum brá í brún þegar hann viðraði hugmyndir um að Íslendingar kæmu á fót eigin her. Fram til þessa hefur Björn Bjarnason verið nánast einn íslenskra stjórnmálamanna um að ala með sér slíka drauma.

16. Júlí 2003

Skattahækkun eða niðurskurð?

Þeir Björn Bjarnason og Einar Karl Haraldsson og aðrir talsmenn þess að komið verði á fót íslenskum her, verða að gera grein fyrir því hvernig þeir ætla að fjármagna vígvæðinguna. Einar Karl hefur sagt að vissulega myndu hernaðarútgjöld þrengja að öðrum kostum. En eins og margir félagar hans í Samfylkingunni fyrir kosningar (að ógleymdum framsóknarmönnunum) reynir hann að fara auðveldu leiðina...
Arnfríður

16. Júlí 2003

Orðum beint að Staksteinum

Staksteinadálkur Morgunblaðsins í dag vekur okkur til umhugsunar. Að mati pistlahöfundar er “óskiljanlegt hvað vinstri menn eiga við þegar þeir tala um nýfrjálshyggju”. ...

15. Júlí 2003

Um framtíð Ríkisútvarpsins

Birtist í DV 14.07.2003
Sá háttur hefur verið tekinn upp að birta leiðara DV nafnlausa líkt og tíðkast á Morgunblaðinu. Þannig er sá tími runninn upp að blaðið hafi skoðun. Í leiðara um sl. helgi viðrar DV skoðanir sínar á ljósvakafjölmiðlunum auk þess sem blaðið skilgreinir sinn skilning á framförum í efnahagslífinu. Fyrirsögn leiðarans gefur tóninn...

15. Júlí 2003

Jóhann Óli og Óli Björn

Niðurlag leiðara DV í dag er einstaklega gott og vil ég taka undir hvert einasta orð, sérstaklega í lokasetningunni. Hún er svohljóðandi: "Í þessu efni eins og öðrum verður skynsemin að ráða."  En þótt þessi setning sé góð og hafi lög að mæla þá gildir hið sama því miður ekki um flestar aðrar setningar í þessum leiðara...

13. Júlí 2003

Veikleiki utanríkisráðherra.

Í sunnudagsblaði Fréttablaðsins situr Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, fyrir svörum. Víða er komið við. Á meðal annars er rætt um Íraksmálið. Vísað er í hremmingar Tonys Blairs í Bretlandi en breski forsætisráðherrann sætir nú sem kunnugt er  vaxandi gagnrýni fyrir að hafa ekki komið hreint fram gagnvart þjóð og þingi þegar hann talaði fyrir árás á Írak. Fyrir bragðið hafi dregið úr fylgi við hann.Halldór er spurður hvort hann hafi ekki sjálfur tekið skakkan pól í hæðina.

11. Júlí 2003

Trúnaður aldrei til trafala?

Utanríkisráðherra landsins blæs á kröfur um að umræður um framtíð bandaríska herliðsins hér á landi fari fram fyrir opnum tjöldum. Það gerði Halldór Ásgrímsson m.a. í Fréttablaðinu í gær. Honum og Davíð Oddssyni forsætisráðherra hefur verið legið á hálsi fyrir að leyna þjóðina mikilvægum upplýsingum um áform Bandaríkjamanna.

11. Júlí 2003

Um fínafólksdekur og gægjugöt

Sæll Ögmundur
Ég er hjartanlega sammála pistli þínum frá 9.júlí, Sjálfsvirðing í húfi.  Þetta endalausa fínafólksdekur er vægast sagt hvimleitt í fjölmiðlunum auk þess sem ég er sammála þér að þetta er ekkert saklaust. Þetta er til þess fallið að upphefja hóp af fólki á forsendum embætta, valda eða peninga. Þetta býr ekki aðeins til gerviheima heldur hlutar þetta þjóðina raunverulega í sundur og stuðlar að óæskilegu samskiptaformi í þjóðfélaginu einsog þú bendir á. Fyrir hógvært fólk sem trónir á toppunum...
Kveðja, Brynhildur

9. Júlí 2003

Sjálfsvirðing í húfi

Yfirleitt taka Íslendingar hlýlega á móti nýjum löndum sínum og er það vel. Þannig er það ánægjulegt hve forsetafrúnni á Bessastöðum, Doritt Moussaieff, hefur verið vel tekið af landsmönnum. Það hefur einnig átt við um fjölmiðla, þ.e.a.s. að öllu öðru leyti en einu.

9. Júlí 2003

Morgunblaðið ver Blair

Leiðari Morgunblaðsins í dag er kostulegur. Hann ber fyrirsögnina: BLAIR, BBC og GEREYÐINGARVOPNIN. Í leiðaranum segir orðrétt: "Nefnd breska þingsins telur sannað að þær fullyrðingar sem BBC setti fram eigi ekki við rök að styðjast. Hugsanlega hafði heimildarmaður BBC ekki aðgang að öllum upplýsingum.....

8. Júlí 2003

Spunadoktor Blairs

Það er umhugsunarvert hve oft Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og nánustu samstarfsmenn eru sakaðir um óvönduð vinnubrögð og að í því samhengi komi alltaf sömu nöfnin upp á yfirborðið. Eitt þessara nafna er Alastair Campbell sem er almannatengslafulltrúi breska forsætisráðherns. Í Kosovostríðinu var Campbell þessi einhvern tímann gerður út til Brussel að ræða upplýsingamál í höfuðstöðvum Nató. Haft hefur verið eftir Jamie Shea þáverandi fréttafulltrúa Nató að þessi heimsókn hafi verið mikil mistök því.........

8. Júlí 2003

Spánýjar upplýsingar frá Sturlu

Bæjarstjórinn á Siglufirði og samgönguráðherra sátu á rökstólum í Kastljósi Sjónvarps í kvöld og fjölluðu um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fresta Siglufjarðargöngum. Látum þá ákvörðun liggja á milli hluta. Gleymum því líka að ríkisstjórnin skuli farin að svíkja kosningaloforð sín í gríð og erg, aðeins fáeinum vikum eftir kosningar. Staðnæmumst hins vegar við þær skýringar sem hún gefur á kosningasvikum sínum.

4. Júlí 2003

Flokkarnir geri grein fyrir afstöðu sinni til hersins

Birtist í DV 03.07.2003
Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður á DV skrifar ágæta grein í DV sl. helgi undir fyrirsögninni: Er leyndin í lagi? Kveikjan að greininni er umræðan undanfarna daga um hvort réttmætt hafi verið að leyna þjóðina upplýsingum um framvindu herstöðvamálsins, þar á meðal bréf til íslensku ríkisstjórnarinnar frá bandarískum stjórnvöldum skömmu fyrir kosningar þar sem skýrt var frá þeim ásetningi Bandaríkjamanna að draga stórlega úr umsvifum Bandaríkjahers hér á landi. Í grein sinni kemst blaðamaður DV að þeirri niðurstöðu að þögnin hafi ekki skaðað þjóðarhagsmuni, en það réttlæti hana hins vegar ekki.

30. Júní 2003

Á að bjarga einkastöðvum með því að kyrkja RÚV?

 Í morgun fór fram umræða um framtíð Ríkisútvarpsins í morgunsjónvarpi Stöðvar 2. Til leiks voru mætt þau Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki og Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingu. Ekki bar eins mikið í milli í málflutningi þeirra og ég hefði ætlað að óreyndu. Samkeppnisstaðan væri skökk, sögðu þau bæði og hallaði á einkareknar stöðvar; úr þessu þyrfti að bæta hið bráðasta.

30. Júní 2003

Verður talað úr taglinu?

Herstjórnin í í Írak hefur ákveðið að stöðva bæjarstjórnarkosningar í Írak. Paul Bremer sem fer fyrir bandaríska hernámsliðinu segir að " kosningar sem haldnar eru of snemma geti verið skaðlegar. Við verðum að vanda okkur."  Bremer bætir því að sjálfsögðu við að hann sé alls ekki á móti sjálfstjórn. "Ég er ekki andvígur henni, en ég vil engu að síður að tekið verði mið af okkar hagsmunum ( takes care of our concerns)." Hér gerist Bremer svo lítillátur að vísa til bandarískra hagsmuna.

24. Júní 2003

Allt stuðningsmenn Saddams?

Frá Írak berast nú daglega fréttir af árásum á bandaríska hermenn í Írak. Fréttirnar af þessum árásum eru nokkuð áþekkar. Í Morgunblaðinu 17. júní segir, svo dæmi sé tekið: "Að minnsta kosti sjö bandarískir hermenn hafa særst, þar af tveir alvarlega, í árásum sem stuðningsmenn Saddams Husseins, fyrrverandi forseta Íraks, hafa gert á Bandaríkjamenn undanfarna tvo daga. Talsmenn Bandaríkjahers í Írak greindu frá þessu í gær."

23. Júní 2003

Framtíðarskipan í menntamálum

Sæll Ögmundur!
Ég las grein eftir þig í Mogganum þar sem þú fjallar um Háskólann í Reykjavík og þær hugmyndir sem Guðfinna rektor hefur haft um rekstrarform skólans. Ég er þér algjörlega ósammála varðandi það að þessar hugmyndir þeirra Guðfinnu og rektorsins á Bifröst séu ekki til góðs fyrir háskólalífið á Íslandi. Ég tel Háskólann í Reykjavík hafa gjörbreytt landslaginu hérna til hins betra í háskólalífinu og veitt HÍ tímabært mótvægi. Mig langar hins vegar að vita nánar hvaða hugmyndir þið í VG hafið um framtíð Háskólans í Reykjavík. Ég er nemandi hérna og skiptir þetta mig því miklu máli.
Árni Gunnarsson

22. Júní 2003

Hvers vegna sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna?

Sem kunnugt er hefur ríkisstjórnin lýst því yfir að hún sækist eftir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Almennt hefur þetta mælst vel fyrir hér á landi án þess þó að málið hafi fengið ítarlega umfjöllun. Menn hafa einfaldlega gefið sér að þetta væri til góðs – fyrir Íslendinga. Þessi afstaða kemur skýrt fram í spurningu sem blaðamaður Morgunblaðsins beinir til forseta Alþjóðafriðarakademíunnar í New York sem hér er nú staddur í boði utanríkisráðuneytisins. (Sjá viðtal við David M. Malone í Morgunblaðinu 21.júní.) Spurningin er nokkuð dæmigerð fyrir okkur Íslendinga og er svohljóðandi: " Ísland mun væntanlega, innan fárra ára, bjóða sig fram til sætis í öryggisráðinu, hvaða þýðingu hefði það fyrir litla þjóð eins og okkur?"

22. Júní 2003

Gestafyrirlesari utanríkisráðuneytisins

Það er alltaf gagnlegt að fá utanaðkomandi fyrirlesara til að sækja okkur heim og varpa ljósi á á þau álitamál sem uppi eru í samtímanum. Utanríkisráðuneytið á þakkir skilið fyrir að bjóða til landsins David M. Malone forseta Alþjóðlegu friðarakademíunnar í New York til að halda fyrirlestur um stöðu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta er athyglisvert viðfangsefni, ekki síst vegna þeirra deilna sem risið hafa í tengslum við Íraksmálið. Fyrirlesturinn var fróðlegur og að mörgu leyti skemmtilegur þótt mér finnist ástæða til að gagnrýna hann mjög ákveðið um margt.

18. Júní 2003

Raup af beini meistara

Í skólaskýrslum Menntaskólans á Akureyri frá fyrri árum má lesa sér til um atvinnu foreldra þeirra sem þangað sóttu sér þekkingu og menntun. Bændur, verkamenn, sjómenn og iðnverkamenn virðast hafa átt margar dætur og syni í MA, enda fjölmennar starfsstéttir. Skólinn þar fyrir utan háborg skólamenntunar landsbyggðarfólks lengi fram eftir öldinni sem leið og heimavistardvölin sá bjarghringur margra fátækra fjölskyldna sem varð til þess að þeim tókst að styðja barn sitt og stundum börn sín til mennta. Kannski gufuðu aðstæður fátæks fólks upp eftir Tryggvi Gíslason varð meistari í MA.
Ólína

18. Júní 2003

Er bætandi á misréttið Tryggvi?

Tryggvi Gíslason skólameistari Menntaskólans á Akureyri hefur alla tíð verið í miklu uppáhaldi hjá mér sem góður skólamaður auk þess sem hann hefur oft haft margt uppbyggilegt fram að færa í þjóðfélagsumræðunni. Skólaslit Menntaskólans á Akureyri hafa þannig í hans skólameistaratíð verið vekjandi samkomur og hefur framlag skólameistara ekki síst verið þess valdandi. Þess vegna koma yfirlýsingar Tryggva Gíslasonar nú um að selja beri aðgang að menntaskólum landsins gersamlega í opna skjöldu. Í lesendabréfi frá Ólínu í dag er tekið djúpt í árinni hvað þetta snertir.

17. Júní 2003

Suma þarf ekki að blekkja

Í fréttum er nú talsvert fjallað um ósannindavefinn sem bandarísk og bresk stjórnvöld spunnu til að réttlæta árásirnar á Írak. Enginn virðist lengur véfengja að blekkingum hafi verið beitt, heldur er spurt hverjir séu ábyrgir fyrir blekkingunum. Auðvitað er fyrst og fremst við ósannindamennina að sakast en einnig er ljóst að fréttastofur heimsins þurfa að taka sér tak og þá ekki síður stjórnmálamenn.

16. Júní 2003

Er ég ekki til, eða hvað?

Upp á síðkastið hef ég lagst í dálitlar heimspekilegar vangaveltur og tengjast þær þenkingar mínar að stórum hluta Bush Bandaríkjaforseta og stjórn hans. Alls kyns fræðingar í íslensku menningarelítunni tala nú mikið um póstmódernisma eins og ekkert sé sjálfsagðara. Ekki liggur þetta hugtak fyrir fótum mér en ég veit þó að þetta tengist ekkert póstþjónustunni eins og sumir, bæði leikir og lærðir, hafa talið.
Þjóðólfur

16. Júní 2003

Bifröst og Háskólinn í Reykjavík kynna kröfugerð

Birtist í Morgunblaðinu 15.06.2003
Hvers kyns mismunun á markaðstorginu er sem eitur í beinum allra sannra markaðssinna. Litið er á slíkt sem arfleifð liðins tíma. Hlutverk hins opinbera á samkvæmt þeirra kokkabókum að einskorðast við að setja almennar reglur og greiða síðan fyrir aðkeypta þjónustu. Í þessum anda eru nú settar fram, af hálfu rektora Viðskiptaháskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík, hugmyndir um að gera Háskóla Íslands að sjálfseignarstofnun sem færa eigi yfir á torg markaðarins. Hugmyndin er sú að allir háskólar skuli sitja við sama borð gagnvart skattgreiðandanum. Komi nýir skólar fram á sjónarsviðið skuli skattpyngjurnar standa þeim opnar á sömu forsendum og þeim skólum sem fyrir eru.

16. Júní 2003

Hvar voru fjölmiðlarnir?

Sæll Ögmundur.
Ég skrifaði þér lesendabréf  26. mars sl. þar sem ég fjallaði um blekkingar Bandaríkjastjórnar í Íraksmálinu og gaf vefslóð máli mínu til stuðnings. Allt þetta birtir þú undir fyrirsögninni Falsanir notaðar sem röksemdir fyrir styrjöld, og ég sé að enn er hægt að nálgast þetta bréf með því að fara í eldri lesendabréf frá þessum tíma.
Kveðja,Helgi

13. Júní 2003

Hinn fullkomni dónaskapur - Davíð niðurlægður

Sæll Ögmundur.
Oftast er ég ósammála málflutningi og afstöðu Davíðs Oddssonar og Björns Bjarnasonar, en ég virði skoðanir þeirra eins og annarra og viðurkenni fúslega að Björn Bjarnason er sá borgaralegi stjórnmálamaður íslenskur sem býr yfir hvað víðtækastri þekkingu á utanríkismálum.
Ólína

13. Júní 2003

Meiri áhugi á stjórum á RÚV og Mogga en forsætisráðherra?

Í lesendabréfri frá Ólínu í dag er  því haldið fram að aðstoðarutanríkisráðherra  Bandaríkjanna hafi sýnt meiri áhuga á því að ræða við ritstjóra Morgunblaðsins og fréttatstjóra RÚV en forsætisráðherra Íslands í nýafstaðinni heimsókn. Í bréfinu segir m.a. eftirfarandi:

12. Júní 2003

Utanríkisráðherra, Írak og öryggi Íslands

Birtist í Fréttablaðinu 11.06.2003
Við birtingu  í Fréttablaðinu féllu niður nokkrar setningar en hér birtist greinin óstytt.
Meiri áhugi á stjórum á RÚV og Mogga en forsætisráðherra?
Ég hef saknað þess nokkuð að utanríkisráðherra Íslands sé látinn svara fyrir þá ábyrgð sem ríkisstjórnin axlaði á vegum þjóðarinnar þegar hún studdi árásirnar á Írak og skipaði Íslendingum í hóp svokallaðra staðfastra þjóða að baki Bandaríkjamönnum og Bretum.
Nú er að koma fram í dagsljósið að miklar líkur eru á því að helstu forsvarsmenn bandarísku og bresku ríkisstjórnanna hafi beitt blekkingum um vopnabúnað Íraka til þess að geta fengið samþykki heima fyrir til að ráðast á Írak. Fyrir þá sem fylgst hafa grannt með Íraksmálinu kemur þetta ekki á óvart því þótt heimsfjölmiðlarnir hafi verið seinir að taka við sér hefur reglulega verið bent á ósannindatal sem einkum Bush Bandaríkjaforseti hefur orðið uppvís að í þessu máli.

12. Júní 2003

Fjöldamorðin í Afganistan og Sjónvarpið.

Efir að Bandaríkin náðu undirtökum í Afganistan virðist fátt skipta máli í því landi lengur, ekki einu sinni fjöldamorð á þrjú þúsund talibönum vekja athygli svo heitið geti. Fáir virðast kippa sér upp við það þegar fangelsi á borð við það sem er að finna í borginni Sheberghan er líkt við Auschwitz fangabúðir nasista í Þýskalandi. Á þessu eru vissulega undantekningar og vil ég vísa þar til dæmis í mjög góða grein Guðlaugs Bergmundssonar blaðamanns í DV fyrir nokkrum dögum.

10. Júní 2003

Menningin blómstrar í Munaðarnesi

Um helgina var opnuð sýning á verkum Önnu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu í orlofsbyggðum BSRB í Munaðarnesi. Í tengslum við opnunina var að venju efnt til Menningarhátíðar. Þótt að sönnu megi segja að menningin blómstri í Munaðarnesi sumarlangt  því salarkynni þar verða prýdd verkum Önnu fram á haust þá er sú Mennnigarhátíð sem efnt var til við opnunina ekki löng en svo mögnuð að við hjá BSRB treystum okkur til að skrifa hana með stórum staf. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona – Diddú – söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara. Húsfyllir var að sjálfsögðu og hreif Diddu alla viðstadda og Jónas Ingimundarson fór á kostum í tali og tónum. Pétur Gunnarsson rithöfundur ávarpaði gesti og las upp úr verkum sínum bæði í bundnu máli og óbundnu. Var gerður sérlega góður rómur að. Myndir Önnu Gunnlaugsdóttur  á sýningunni eru andlitsmyndir kvenna. Ég virti fyrir mér gestina á opnunarhátíðinni í Munaðarnesi horfast í augu við konurnar hennar Önnu og sá ég ekki betur en vel færi á með þeim.

10. Júní 2003

Gagnrýni á RÚV

Sjónvarpinu hefur oft verið legið á hálsi fyrir að leyfa svokallaða kostun en það hugtak er haft um dagskrárgerð sem að meira eða minna leyti er kostað af fyrirtækjum. Sú hætta er jafnan fyrir hendi að sá sem kostar efnið hafi jafnframt áhrif á umfjöllun og efnistök viðkomandi þáttar. Þar með eru peningarnir farnir að stýra dagskrárgerðinni, nokkuð sem flestir vilja forðast alla vega þeir sem er umhugað um frjálsa fjölmiðlun. Auglýsingasjónvarp á að mínum dómi að bjóða upp á afmarkaða auglýsingatíma en hvergi blanda auglýsingum og þáttagerð saman. Í dag birtist hér á síðunni bréf frá Ólínu sem lesendum þessarar síðu er góðkunn.

10. Júní 2003

Markús, Bjarni, Þorsteinn og beinar auglýsingar

Sæll Ögmundur.
Þeir voru að sýna langa auglýsingamynd í dagskrárefnislíki Markús Örn og Bjarni Guðmundsson. Í dagskrárkynningu hét hún Á ferð og flugi um Suður-Afríku. Halda mátti að efnið væri auglýsing á borð við samfylkingarauglýsingu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem tekin var í aristókratískri byggingu í Þingholtunum í hvítu og átti að höfða til íslensks almúga, en nei, þetta átti að vera dagskrárgerð.
Ólína

7. Júní 2003

Hver bauð þessum mönnum?

Hver í ósköpunum hefur óskað eftir því að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kæmu hingað til lands til að gefa okkur einkunn í stjórn efnahagsmála? Hver þekkir ekki einkunnagjöf Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Sennilega hefur ekkert ríki farið eins rækilega að vilja þessara stofnana og Argentína, þar var allt einkavætt sem hægt var að einkavæða og ráðleggingum "sérfræðinganna" frá stofnunum tveimur fylgt í þaula. Ekkert land hefur farið eins illilega á hausinn og einmitt þessi fyrirmyndarnemandi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Og nú eru þeir komnir hingað.

29. Maí 2003

Popptíví kannar öryggisvörslu á Bessastöðum

Birtist í DV 28.05.2003
Fyrirsögnin hér að ofan vísar í fyrirsögn á fréttafrásögn í DV sl. laugardag. Þar segir frá tveimur ungum mönnum sem vildu kanna hvernig öryggisvörslu væri háttað á Bessastöðum, hversu nálægt þeir kæmust æðstu ráðamönnum þjóðarinnar. Þeir töldu sig komast býsna langt.

29. Maí 2003

Þörf á naflaskoðun?

Í Bandaríkjunum er nú vaxandi gagnrýni á framgöngu bandarískra stjórnvalda í Íraksmálinu. Ítrekað hafa komið upp tilvik þar sem Bush og nánustu samstarfsmenn hans hafa reynst ósannindamenn. Leiðarahöfundur bandaríska stórblaðsins International Herald Tribune skrifar í vikunni ( 27. maí ) : “ Í ljósi vaxandi efasemda um nákvæmni upplýsinga frá bandarísku leyniþjónustunni um óhefðbundinn vopnabúnað Íraka áður en ráðist var á landið, ber að fagna því að nú skuli hafin rannsókn á áreiðanleika njósnakerfisins.”

25. Maí 2003

Ofbeldið í Palestínu og vinabæjarhugmyndin

Stöðugt berast fréttir af ofbeldisverkum í Palestínu. Augljóst er að ísraelsk stjórnvöld vinna að því leynt og ljóst að brjóta Palestínumenn niður andlega, gera þeim ólíft í landinu, væntanlega í þeirri von að á endanum hrekist þeir á brott þaðan. Ég velti því oft fyrir mér hvernig við hefðum brugðist við ef Palestínumenn væru svartir en Ísraelsmenn hvítir, eða þá öfugt. Þá hefði kynþáttastefnan, apartheid, verið augljósari en hún er nú. Hér á síðunni er grein sem ber heitið Látum auga heimsins hvíla á Palestínu (frá 19.5). Þar er vitnað í frásagnir utanaðkomandi fólks, þar á meðal Íslendinga, af atburðum í Palestínu. Ég hvet fólk til þess að kynna sér þessar frásagnir.

25. Maí 2003

Breyttar áherslur á Alþingi

Birtist í Fréttablaðinu 24.05.2003
Nýafstaðnar alþingiskosningar geta varla talist mjög sögulegar að öðru leyti en því að það var að vissu leyti afrek fyrir ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að halda velli þegar litið er til slóðans sem hún skilur eftir sig á átta ára valdaferli. Stjórnin kemur að vísu tætt út úr kosningunum. Báðir stjórnarflokkarnir tapa fylgi en ekki meiru en svo að ríkisstjórnin kemur til með að skrimta. Í stjórnarsáttmálanum hótar hún framhaldi á þeirri stefnu sem hér hefur verið rekin undanfarin ár og er það ekki fagnaðarefni.

23. Maí 2003

Hrókeringar í Stjórnarráði og næsti bær við herinn?

Nafn Árna Magnússonar kom óvænt upp sem nýr félagsmálaráðherra landsins. Hann er óskrifað blað í pólitík að öðru leyti en því að hann er náttúrlega framsóknarmaður fram í fingurgóma. Árni á rætur inn í RÚV í gegnum föður sinn, Magnús Bjarnfreðsson, og sjálfur var hann um skeið fréttamaður Sjónvarps. Þetta eru traustir feðgar og að mínum dómi er Árni ekki slæmur kostur fyrir skjólstæðinga Félagsmálaráðuneytisins.

22. Maí 2003

Vonandi eins og dauð rolla

Einu sinni var sagt um breskan stjónmálamann að hann væri álíka spennandi og dauð rolla. Þessi samlíking kom upp í hugann þegar sagt var frá þeim „stórfenglegu tíðndum“ að ríkisstjórnin sæti sennilega óbreytt áfram, að því undanskildu að Davíð Oddsson hætti sem forsætisráðherra undir lok næsta árs.

20. Maí 2003

Það var kosið um heilbrigðismál

Birtist í Mbl. 19.05.2003
Ríkisstjórnarflokkarnir koma laskaðir út úr nýafstöðnum alþingiskosningum. Reyndar ekki eins illa og margir höfðu spáð, en báðir stjórnarflokkarnir tapa þó fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn tapar meiru en Framsókn og hafa menn velt því fyrir sér hvers vegna það hafi gerst.

20. Maí 2003

Verslunarráð Íslands bregst aldrei

Vinur minn einn sagði í gærkvöldi eftir að þulir úttvarpsstöðvanna höfðu tíundað boðskap Verslunarráðs Íslands um einkavæðingu almannaþjónustunnar, að gamla góða VÍ brygðist aldrei hvernig sem á málin væri litið. Spaugstofan færi í frí og samstundis fyllti VÍ skarðið. Og vildu menn taka óhúmorískan pól í hæðina þá mætti líta á Verslunarráðið sem eins konar kjölfestu, alltaf tilbúið að leggja til að eins og einn spítali verði einkavæddur.

19. Maí 2003

Látum auga heimsins hvíla á Palestínu

Lengi hef ég ætlað að setja niður nokkur orð um Rachel Corey. Hún var tuttugu og þriggja ára gömul þegar hún var myrt af ísraelskum hermönnum. Morðið var framið á yfirvegaðan og kaldrifjaðan hátt. Þessi unga stúlka, sem var einlægur friðarsinni, vildi koma í veg fyrir að hús palestínskrar fjölskyldu yrði jafnað við jörðu. Hún stóð í vegi fyrir jarðýtunni sem var notuð til þess verknaðar. Fyrst var hent braki og jarðvegi yfir stúlkuna og þegar hún féll til jarðar var ýtt yfir hana, handleggir og fótleggir brotnuðu og höfuðkúpan brákaðist. Hún lést skömmu síðar. Þetta gerðist 16. mars síðastliðinn.

18. Maí 2003

Skerðum ekki veikindaréttinn

Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, viðrar ýmsar hugmyndir  í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í dag. Ekkert er nema gott um það að segja að forsvarsmenn í samtökum launafólks leyfi sér stundum að hugsa upphátt opinberlega og varpa fram hugmyndum. Með því móti er stuðlað að frjórri umræðu. Forsenda þess er að sjálfsögðu að menn fái viðbrögð á hugmyndir sínar.

16. Maí 2003

Vopn og verjur Framsóknar

Kosningabarátta Framsóknarflokksins var að mínu mati mjög vel lukkuð að öllu leyti nema einu eins og ég varð áþreifanlega var við þegar ég var kominn upp í rúm eftir spennandi kosninganótt. Lítum fyrst á það sem var vel lukkað fyrir mína parta enda hef ég jú alltaf reynt að halda því til haga sem vel er gert.
Tímóteus Þjóðólfsson

16. Maí 2003

Tillaga um nýtt form á kosningaumræðunni

Ég held að flestum beri saman um að kosningaumræðan í ljósvakafjölmiðlunum sé komin í öngstræti. Efstu menn á listum í hverju kjördæmi eru boðaðir í færibandaþætti og garnirnar eru raktar úr formönnum flokkanna í fjölda spjallþátta. Útkoman er óttaleg flatneskja; umræða sem hvorki er fugl né fiskur. Frammistaða einstakra frambjóðenda ræðst vissulega að nokkru leyti af því hve vel þeir koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Yfirleitt eiga þeir þó allt sitt undir duttlungum stjórnenda þáttanna um hvort pólitísk hugðarefni þeirra eru yfirleitt rædd.

16. Maí 2003

Hugsunarleysi fréttamanna?

Fréttastofur RÚV fjölluðu í gærkvöldi um hugmyndir talsmanna "atvinnulífsinis" um skattamál. Rætt var við fulltrúa ASÍ og SA. Fulltrúi ASÍ varaði eindregið við skattalækkunum vegna Kárahnjúkaþenslu. Slíkt ætti ekki að vera á döfinni næstu árin. Nokkuð sakna ég að þessi umræða skyldi ekki hafa farið fram fyrir kosningar, að ekki sé nú minnst á að hún færi fram áður en ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun var tekin. Nú vill svo til að eini aðilinn á vinnumarkaði sem sett hefur fram ítarlegar hugmyndir um skattkerfisbreytingar síðustu misserin er BSRB. Þær tillögur fela það í sér að tekjustofnar almannasjóða kæmu ekki til með að skerðast en ráðstöfunarfé lágtekju- og millitekjuhópa ykist hins vegar til muna.

15. Maí 2003

Blair opnar pyngjur almennings fyrir fjárfestum

Miklar deilur hafa að nýju blossað upp í Verkamannaflokknum í Bretlandi út af því sem velferðarsinnarnir í flokknum kalla "ástarsamband Nýja Verkamannaflokksins við einkageirann". Sem kunnugt er reyna fjárfestar um víða veröld að þröngva sér inn í velferðarþjónustuna. Þeir vita sem er að þar eru unnin störf sem verða nauðsynleg um ókomna framtíð og ef vel er haldið á spöðunum af þeirra hálfu má hafa þaðan góðan hagnað. Af þessu hafa Íslendingar þegar haft nasasjón.

14. Maí 2003

Góðar óskir

Sæll, Til hamingju með að komast inn fyrir Reykjavíkurkjördæmi Suður. Ég vonast til að þú beitir þér af heilum hug við að koma sjónarmiðum "okkar" vinstri grænna til skila bæði á Alþingi og annarstaðar þar sem pólitísk umræða á sér stað.
Magnús H. Gíslason

14. Maí 2003

Auglýsingar og stjórnmál

Sæll Ögmundur og til lukku með þann árangur sem VG náðu. Mig langaði að spyrja út í þetta með auglýsingar sem hluta af kosningabaráttu, sem þið hafið gagnrýnt réttlætanlega að mínu mati. Er með einhverju móti hægt að koma í veg fyrir þetta þannig að réttlætanlegt verði og er ekki frekar áhyggjuefni að einhver hluti fólks gleypir við þessu frekar en að flokkarnir (mis)noti þá upplýsingaleið sem auglýsingar geta verið? Kveðja frá Kaupmannahöfn
Hörður G.

14. Maí 2003

Kjaradómur á ábyrgð þingsins

Hvernig stendur á því að ráðherrar fengu launahækkun sem samsvarar mínum launum með yfirvinnu? Hverjir eru í kjaradómi og af hverju ákveða þingmenn ekki sín laun sjálfir? Halda þeir að þeir geti falið sig á bakvið einhverja nefnd og þurfa því ekki að svara fyrir þessar hækkanir?
Kveðja Andrés Kristjánsson

14. Maí 2003

Ábyrgðarlaust af Framsókn að horfa aðeins til hægri

Snemma í morgun kom ég í útvarpsviðtal við Óðinn Jónsson hjá RÚV. Hann spurði út í kosningar og framtíðarhorfur hjá Vinsrihreyfingunni grænu framboði. Að því er ég best veit var allt satt og rétt sem fram kom í viðtalinu. Að því loknu fékk ég hins vegar upphringingu frá ágætum vini mínum. Hann sagði að Framsókn kæmist of auðveldlega hjá því að svara hvers vegna flokkurinn horfði einvörðungu til Sjálfstæðisflokksins um stjórnarmyndunarsamstarf. Mikið væri í húfi, þannig lægi í loftinu að Sjálfstæðisflokkurinn vildi fá heilbrigðisráðuneytið til þess að markaðsvæða innan heilbrigðisþjónustunnar sem aldrei fyrr.

11. Maí 2003

Ólína bíður spennt eftir Mogga

Ólína sem að mínu mati kemur oft auga á ýmsar athyglisverðar hliðar stjórnmálanna sendi síðunni bréf í morgun. Hún fjallar um ýmsar hliðar úrslitanna, þar á meðal breyttar áherslur innan Sjálfstæðisflokksins. Þar hafi konur úr hófsamari kantinum horfið úr þingsveitinni...

11. Maí 2003

Vilji kjósenda

Sæll Ögmundur.
Skemmtilegt viðfangsefni vilji kjósenda. Nú liggur fyrir að kjósendur vildu ekki Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, þeir höfnuðu því að láta Davíð Oddsson vera lengur fyrsta þingmann okkar Reykvíkinga í norðurkjördæminu, þeir hafna áherslum Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og refsa Sjálfstæðisflokknum, - ef marka má úrslit kosninganna! Er þetta svona einfalt og skýrt?
Ólína

11. Maí 2003

Má ekki Framsókn kynna sín störf?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson spurði þessarar spurningar í Silfri Egils í dag þegar auglýsingamennsku kosningabaráttunnar bar á góma í þættinum. Sem kunnugt er komst enginn flokkur með tærnar þar sem Framsóknarflokkurinn hafði hælana í auglýsingaglamri fyrir þessar kosningar. Verðugt væri að gera úttekt á pólitískum auglýsingum í aðdraganda kosninga á Íslandi. Þær færast jafnt og þétt í vöxt. Í viðræðum talsmanna stjórnmálaflokkanna í sjónvarpi í kvöld sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingu, þetta einfaldlega fylgisfisk upplýsingaþjóðfélagsins. Steingrímur J Sigfússon form. VG benti réttilega á að þessar auglýsingar hefðu ekkert með upplýsingar að gera.

10. Maí 2003

Það verður kosið um heilbrigðismál

Birtist í Mbl. 10.05.2003
Í aðdraganda kosninganna hefur verið horft mjög til skattamála. Því miður hafa stjórnarflokkarnir og Samfylkingin sem boða minni tekjur ríkisins með skattatillögum sínum ekki verið krafðir nægilega svara um hvar þeir ætli að skera niður eða að hvaða marki þeir ætli að mæta niðurskurðinum með auknum þjónustugjöldum. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hótar því að skera niður skatta sem nema rekstrarkostnaði Landspítalans og öllum lyfjaútgjöldum ríkisins og öllum greiðslum til sérfræðinga, þá er því ósvarað hverjir eigi að borga.

10. Maí 2003

Þeir láta flagga sér

Fyrir svo sem eins og fjörutíu árum heyrðum við fyrstu bítlalögin leikin í Útvarpinu og allt í einu varð eins og framtíðin yrði áþreifanlegri. Við settum upp bleikan varalit stöllurnar og löbbuðum í bæinn á bleikum drögtum og vorum sjálfstæðar. Stundum dróst fóðrið niður undan drögtunum og stundum rann undirpilsið niður þannig að það flaggaði eins og þetta var kallað.
Ólína

10. Maí 2003

Verkalýðshreyfing gegn skoðanakúgun

Tilraunir forsvarsmanna Útgerðarfélags Akureyrar til skoðanakúgunar eru forkastanlegar. Í lesendabréfi í dag brýnir Ólína verkalýðshreyfinguna til að rísa upp gegn yfirgangi útgerðarforstjóranna og tilraunum þeirra til að stýra starfsmönnum í kjörklefunum.

10. Maí 2003

Stefnan í mannréttindamálum

Fyrir alþingiskosningar beina aðskiljanleg samtök spurningum til stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka og óska eftir afstöðu þeirra til málefna sem tengjast viðkomandi samtökum. Á meðal fyrirspurna sem bárust inn á mitt borð voru neðangreindar spurningar frá mannréttindasamtökunum Amnesty International.

10. Maí 2003

Styðjið okkur til að styðja ykkur

Birtist í Breiðholtsblaðinu
Hver hafa verið helstu átakamálin á Alþingi síðustu fjögur árin? Ég vil fyrst nefna skattamál. Ríkisstjórnin hefur létt sköttum af fyrirtækjum og efnafólki. Stjórnarandstaðan vildi aftur á móti auka ráðstöfunartekjur láglauna- og millitekjufólks. Þá var harkalega tekist á um kjör öryrkja og lífeyrisþega. Í umhverfismálum urðu miklar deilur innan þings og utan um Kárahnjúkavirkjun og stóriðjuáform ríkisstjórnarinnar. Þá voru utanríkismálin mjög til umræðu, ekki síst ákvörðun ríkisstjórnarinnar að styðja Bandaríkjastjórn í árásum á erlend ríki, nú síðast Írak.

10. Maí 2003

Stóra stjórnmálafölsunarmálið!!

Þrjú stjórnmálagallerí hafa nú auglýst vörur sínar látlaust í tvo mánuði í blöðum, útvarpi og stjónvarpi. Ekki nenni ég að eyða orku minni í Sjálfstæðisgalleríið enda eru þar alltaf sömu verkin gömlu meistaranna í boði. 
Þjóðólfur

9. Maí 2003

Fólk kjósi sankvæmt hugsjón sinni

Birtist í Fréttablaðinu 08.05.2003
Þeir sem ekki eru sammála Vinstrihreyfingunni grænu framboði eiga ekki að kjósa þann flokk. Þeir kjósa að sjálfsögðu þá stjórnmálaflokka sem bera fram sjónarmið sem eru í samræmi við þeirra eigin hugsjónir. En á sama hátt hlýtur það að vera rökrétt að þeir sem vilja styðja félagshyggju, umhverfisvernd og sjálfstæða utanríkisstefnu ljái Vinstrihreyfingunni grænu framboði stuðning sinn. 

9. Maí 2003

Félagshyggja í húfi?

Alls staðar þar sem fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fara á vinnustaði eða koma kosningáherslum sínum á framfæri, er okkur vel tekið. Svo vel, að erfitt er að trúa því að þverrandi fylgi sé við skoðanir okkar. Eina skýringin er því sú að skoðanabræður okkar og systur séu að yfirgefa okkur og ganga til liðs við Samfylkinguna, Frjálslynda og Framsókn.

9. Maí 2003

Baráttufánann að húni

Ávarp á fundi í Íslensku óperunni 08.05.2003
Góðir samherjar og vinir.
Prófessor í lögum við Háskóla Íslands tjáði sig í morgun. Það sem var óvenjulegt var að hann tjáði sig á bréfsefni frá LÍÚ. Hann vitnaði í íslenska dómstóla og Mannréttindadómstól Evrópu. Sigurður Líndal prófessor var að taka upp hanskann fyrir forstjóra útgerðarfyrirtækis sem hafði varað starfsmenn fytrirtækis síns við því að kjósa andstæðinga ríkisstjórnarinnar í komandi Alþingiskosningum.

8. Maí 2003

Er hægt að kaupa traust og trúverðugleika?

Birtist í DV 07.05.2003
Mikið er þjóðfélag okkar gallalaust. Hvergi er að finna nokkra hnökra. Framúrskarandi réttsýnt fólk hefur stjórnað landinu okkar, fólk sem ber takmarkalausa virðingu fyrir umhverfi og náttúru, fólk sem ber hag aldraðra fyrir brjósti, fólk sem setur málefni sjúkra jafnan í forgang og allra þeirra sem eiga við vanda að stríða. Ábyrgð og festa einkennir stjórnarfarið og allt er í lukkunnar velstandi. Þetta er okkur nú sagt í látlausum auglýsingum í útvarpi og sjónvarpi og á síðum dagblaðanna. Hér er dásamlegt að lifa. Hér er vinna, vöxtur og velferð, segja forkólfar Framsóknar og við hljótum að hrópa í einum kór rétt eins og hugmyndahönnuðir Sjálfstæðisflokksins; áfram Ísland, út af með dómarann!

8. Maí 2003

Með belti og axlabönd

Sæll Ögmundur
Nú þegar líða fer að kosningum eru aðal kostningaloforðin skattalækkanir og bætt kjör til almennings sem er gott. Það er kominn tími til að hinir almennu borgarar þessa lands fái að njóta þess góðæris sem sífellt er verið að tala um. Það furðar mig hinsvegar  að einungis er nefnd til sögunnar skattalækkun og ekki nefnt að afnema verðtryggingu lána sem er hið eina raunverulega vandamál almennings.
Kristinn Ingi Jónsson

8. Maí 2003

Sveinn Rúnar Hauksson vekur athygli á Kvífu

Kvífa er hún kölluð eftir framburði, írska hetjan Caoimhe Butterly, sem lifði af skotárás Ísraelshers í Jenin er hún var að bjarga börnum úr skothríðinni. Þeir miðuðu á hana og skutu í læri, hlutverkaskipti urðu og börnin björguðu henni, drógu hana úr skotlínunni og henni var bjargað á sjúkrahúsið í Jenin þar sem hún lá lengi medan hun var að jafna sig.
srh

8. Maí 2003

Atvinnuátak í stað liðugra hnjáliða

Í kosningastefnu VG er sérstök áhersla lögð á atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Það gerum við vegna þess að fyrirsjáanlegt er, að fyrr eða síðar, hverfur erlendur her héðan af landi brott. Bæði er það æskilegt að svo verði en einnig stefnir augljóslega í þetta hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Í stað þess að horfast í augu við þessar staðreyndir klifar Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á nauðsyn þess að ganga á fund Bandaríkjaforseta með bænaskjal um áframhaldandi veru herliðsins.

7. Maí 2003

Ný hugsun

Birtist í Mbl. 06.05.2003
Í aðdraganda Alþingiskosninganna stöndum við frammi fyrir því að margir stjórnmálaflokkar segjast munu beita sér fyrir umtalsverðum skattalækkunum á komandi kjörtímabili fái þeir stuðning kjósenda í alþingiskosningunum. Að óbreyttu kerfi myndi slíkt rýra tekjur ríkissjóðs og stefna velferðarþjónustu okkar í tvísýnu. Í stað þess að veikja tekjustofna ríkis og sveitarfélaga þarf að efla þá. Þetta þekkja allir þeir sem þurfa á þjónustu velferðarstofnana að halda, hvort sem er á sjúkrahúsum, þjónustu við fatlaða, aldraða, í skólum, vísindastofnunum, löggæslu og yfirleitt á þeim sviðum sem almannaþjónustan tekur til.

6. Maí 2003

“Hundrað þúsund milljón”

“Maður á að neita staðreyndum ef þær koma sér illa”. Þetta eru fleyg orð stassjónista Halldórs Laxness í Heimsljósi þar sem hann og Þríhrossið þvælast um við skál. Annar stassjónisti notar nákvæmlega sama orðlag þegar hann neitar fátæktinni í núinu.
Ólína

6. Maí 2003

Skattatillögur vekja athygli

Skattatillögur BSRB hafa vakið verðskuldaða athygli. Skattaumræðan hefur verið í öngstræti um nokkurra ára skeið en með þessum tillögum er gerð tilraun til að færa umræðuna yfir á frjórri vettvang. Í lesendabréfi á síðunni í dag reifar Ólína þessar tillögur og telur að þær eigi eftir að verða áhrifavaldar.

5. Maí 2003

Sveinn Rúnar Hauksson skrifar: Gegn stríði og hernámi Íraks

Góðir félagar
Enn stöndum við hér til að mótmæla árásarstríði Bandaríkjanna, Bretlands og bandamanna þeirra gegn Írak og til að lýsa yfir stuðningi við írösku þjóðina í baráttu hennar gegn hernámi síns lands. Síðast en ekki síst erum við hér til að mótmæla þeirri þjóðarskömm að nafn Íslands skuli hafa verið lagt við þá stríðsglæpi sem framdir eru með fullkomnustu stríðsvél heims gegn þriðjaheims landi...

4. Maí 2003

Flöktandi Framsókn og óábyrgur Sjálfstæðisflokkur

Birtist í Mbl. 03.05.2003
Sennilega hefur Framsóknarflokkurinn fengið bakþanka eftir að hann kynnti í lok febrúar stefnumótun sína í efnahagsmálum fyrir komandi kjörtímabil. Þá voru opinberaðar tillögur flokksins sem kæmu til með að veikja stöðu ríkissjóðs um 15 milljarða króna. Í kjölfarið kom Sjálfstæðisflokkurinn með enn meiri tekjurýrnun fyrir ríkissjóð. Samfylkingin sá að við svo búið mátti ekki standa og sagði að fyrst stjórnarflokkarnir sæju svigrúm til skattalækkana þá hlyti að vera óhætt að byggja á því. Nokkrum dögum síðar kom svo Samfylkingin með tillögur um niðurskurð á tekjum ríkissjóðs um 15 milljarða.

4. Maí 2003

B fyrir bjór

Framsóknarflokkurinn segist vera á miklu flugi. Vissulega er það rétt að flokkurinn virðist vera að sækja í sig veðrið. Jónína Bjartmarz frambjóðandi Framsóknarflokksins í Reykjavík sagði að þetta væri vegna þess að málefnastaða flokksins væri sterk og fólk væri að átta sig á því.

4. Maí 2003

Framsókn, bjórinn og Moby Dick

Í framhaldi af þeirri umræðu sem skapast hefur um óhefðbundin meðöl Framsóknarflokksins við að afla sér fylgis, eins og t.d. að bjóða upp á ókeypis bjór á börum í Reykjavík, enda standi B fyrir bjór, langar mig að nefna að Ungir Framsóknarmenn á Reykjanesi buðu í siglingu á hvalaskoðunarbátnum Moby Dick frá Grindavík sl. laugardag, 3. maí, og var ótæpilega veitt af ókeypis bjór í þeirri ferð.
Suðurnesjamaður

3. Maí 2003

Ólafur S. Andrésson skrifar: Sæstrengur enn og aftur

Í tilefni af opnun vetnisstöðvarinnar við Vesturlandsveg á degi umhverfisins birti breska blaðið The Guardian frétt þar sem  eftirfarandi var haft eftir umhverfisráðherra: Siv Fridleifsdottir, Iceland's environment minister, said various government departments were in talks about exporting its "green" power.  "We have excess capacity from geothermal and hydroelectric sources and we are looking at a cable to carry power to Britain and other European countries," she said.

3. Maí 2003

Tækifæri fyrir atvinnulífið

Blessaður Ögmundur.
Fötin skapa manninn man ég að sagt var við bræður mína um miðja síðustu öld þegar þeir þráuðust við að skella sér í betri gallann á hátíðis og tyllidögum. Þetta skaust í gegnum huga minn þegar ég sá kosningauglýsinguna á blaðsíðu 3 í Morgunblaðinu í dag, laugardag. Þar stendur frambjóðandi einn  á ljósum rykfrakka og horfist í augu við okkur svefndrukkna lesendur og leikur um munn hans undarlegt glott.
Ólína

3. Maí 2003

Staðnæmst á síðu þrjú í Mogga

Nú er haldin mikil veisla í heimi auglýsinganna. Ólína veltir vöngum í dag í lesendabréfi yfir öllum þeim möguleikum sem tæknin hefur upp á að bjóða. Hún staðnæmist sérstaklega við síðu þrjú í Morgunblaðinu í dag. Ólafur S. Andrésson líffræðingur skrifar athyglisverðan pistil í Frjálsum pennum hér á síðunni og vitnar í ummæli umhverfisráðherra Íslands í breska blaðinu Guardian.

1. Maí 2003

Magnús Stefánson og sendiráðsbruðlið

Að sjálfsögðu las ég grein Magnúsar Stefánssonar alþingismanns í Morgunblaðinu í morgun en hann gerir  mér þann heiður að setja nafn mitt í fyrirsögn hennar. Við nánari skoðun reyndist fyrirsögnin vera ofrausn hjá Magnúsi því í greininni kom ég nánast ekkert  við sögu heldur var vitnað í flokksfélaga mína og það á harla undarlegan máta.

1. Maí 2003

Þeir vita hvað þeir gera

Í pistli sem er mjög við hæfi að birta 1.maí, á baráttudegi verkalýðsins, veltir Ólína fyrir sér (sjá Spurt og svarað hér á síðunni) samhenginu á milli skattatillagna Sjálfsæðisflokksins og fyrirsjáanlegra útgjaldaaukningar heimilanna.

1. Maí 2003

Kollsteypa kjarnafjölskyldunnar framundan

Sæll Ögmundur.
Áframhaldandi velsæld og öryggi er rauði þráðurinn í þeirri tálsýn sem Sjálfstæðisflokkurinn heldur að kjósendum í kosningaauglýsingum sínum. Tálsýn segi ég vegna þess Ögmundur að þeir bjóða upp á 30 milljarða skattalækkanir í leiðinni.
Ólína

1. Maí 2003

Lyftum fólki til flugs...

Ávarp Ögmundar Jónassonar í Ólafsfirði 1. maí 2003
Góðir félagar.
Til hamingju með daginn.
Ef til vill þarf börn til að sjá mjög skýrt muninn á réttu og röngu. Alla vega hefði það ekki vafist fyrir neinum í barnaafmælunum sem ég sótti forðum daga að sjá að ekki gengi í afmæli þar sem gestirnir væru tuttugu, að tveir þeirra borðuðu átján sneiðar af afmæliskökunni og skildu aðeins tvær eftir handa öllum hinum. Þá hefði án efa orðið mikið uppistand í afmælinu, foreldrar kallaðir til og sennilega hefðu hinir gráðugu óþekktarormar fengið tiltal.

30. Apríl 2003

Rússarnir ganga aftur

Blessaður Ögmundur.
Ég þakka hlý orð í minn garð. Kosningabaráttan er hrein skemmtun að verða finnst mér. Á dögunum var til dæmis sett upp sýning á gömlum áróðurspésum og slagorðum og vekur þar hvað mesta athygli bláa höndin. Anzi hreint hittinn sem hann er Hallgrímur Helgason.
Ólína

30. Apríl 2003

Þegar litið er hundrað ár til baka...

Ræða Ögmundar Jónassonar á fundi trúnaðarmanna SFR og St.Rv. 29. apríl 2003
Góðir félagar í BSRB.
Það er mér mikið ánægjuefni að ávarpa þennan glæsilega fund trúnaðarmanna SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkur. Þessi fundur ber vott um þann kraft sem er innra með þessum félögum.

29. Apríl 2003

Er þetta Ólína Þorvarðardóttir?

Ég sé ekki betur en síðan þín sé að verða ein sú alfjörugusta. Ég vil þakka þér fyrir þínar greinar en einnig finnst mér mjög góðar greinar sem birtast á síðunni undir Frjálsum pennum og fjölmiðlagagnrýni  og sum lesendabréfin eru mjög góð og greinilega góðir pennar þar á ferð þótt ekki séu þeir allir auðkennanlegir.
Kveðja, Sig. Jónsson

29. Apríl 2003

Fríhöfn í þágu þjóðar

Birtist í Mbl. 28.04.2003
Keflavíkurflugvöllur er stærsta hliðið að landi okkar. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt áherslu á að þessi mikilvægi hluti af samgöngukerfi þjóðarinnar verði í almannaeign og lúti almannastjórn. Þingmenn flokksins töldu mjög óráðlega lagabreytingu sem núverandi ríkisstjórn gekkst fyrir um að gera flughöfnina í Keflavík að hlutafélagi. Væru menn á þeim buxum að markaðsvæða flughöfnina, bæri fremur að líta til þátta í innra starfi. Þar skyldu menn þó láta stjórnast af almannahagsmunum fremur en þröngum hagsmunum einstakra viðskiptafyrirtækja.

29. Apríl 2003

Sveinn Rúnar Hauksson skrifar: Steinar í götu sjúkra

Kæru vinir.
Skrifa nokkrar línur frá Ramallah á síðasta degi þessarar ferðar. Aðstæður eru mjög erfiðar og ómögulegt að komast á alla þá staði sem maður ætlar sér vegna ótrúlegrar uppfinningasemi hernámsliðsins  í að hindra fólk í að komast leiðar sinnar. Við fórum til dæmis til Betlehem á miðvikudagsmorgun og þá á ekki að taka langan tíma að skjótast til Hebron, svona 20 mínútur. Það tók hins vegar tvo og hálfan tíma.

29. Apríl 2003

Frelsarar verða drottnarar

Nýjasta nýtt frá Írak er að frelsurunum sem sögðust vera að frelsa kúgaða Íraka og boða þeim lýðræði og mundu síðan hverfa til síns heima hefur nú snúist hugur - þó marga kunnuga hafi alltaf grunað að ætlanir innrásaraðilana hafi aldrei verið jafn göfugar og þeir reyndu að ljúga til um.
Helgi G. Helgason

28. Apríl 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Hvað tekur við í Írak?

Er hægt að koma á lýðræði í Írak? Og hverskonar leiðtoga kæmu Írakar til með að treysta og velja til forystu? Það hefur borið á því að róttækir sjíítar séu að ná yfirhöndinni í suðurhluta landsins. Auk þess hefur kommúnistaflokkur Íraks hafið aftur starfsemi sína (á fimmta og sjötta áratugnum var hann mjög áhrifamikill) en eitt fyrsta dagblað sem var gefið út í Baghdad eftir fall Saddam Husayn var málgagn kommúnistaflokksins.

28. Apríl 2003

Svikin vara – Verkefni fyrir Neytendasamtökin?

Um helgina hafa verið umræðuþættir í Sjónvarpinu (RÚV) þar sem frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram á landsvísu hafa sest á rökstóla. Þeir hafa gert grein fyrir baráttumálum sínum og skipst á skoðunum um hvernig til hafi tekist við landsstjórina á liðnum árum. Tími er naumt skammtaður eðli málsins samkvæmt. Á milli kjördæmaþáttannna hafa verið auglýsingar. Þar hafa stjórnmálaflokkar, einkum Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, keypt tíma fyrir langar auglýsingar uppfullar af sjálfshóli.

28. Apríl 2003

Nýlenduherrar koma sér fyrir

Breska blaðið Times skýrir frá því að  að fyrrum framkvænmdastjóri Shell olíveldisins muni hafa yfirumsjón með olíuiðnaði Íraka. Þessi frétt er athyglisverð og vert að skoða hana í samhengi við nýja grein frá Magnúsi Þorkeli Bernharðssyni hér á síðunni þar sem hann fjallar sérstaklega um þjóðerniskennd í Írak og andúð á innrásaliðinu.

27. Apríl 2003

Er fyrirheitna landið fundið í einkavæddum ríkisbönkum?

Birtist í Fréttablaðinu 26.04.2003
Aðeins einn flokkur á Alþingi var fylgjandi því að þjóðin starfrækti ríkisbanka. Sá flokkur heitir Vinstrihreyfingin grænt framboð. Þetta vildum við gera til að stuðla að festu og öryggi á fjármálamarkaði auk þess sem okkur var það ekki kappsmál nema síður sé að losa ríkið við banka, sem aldrei höfðu verið ríkissjóði nokkur baggi, þvert á móti skilað eigendum sínum ómældum arði. Þar á ofan höfðu þeir verið landsbyggðinni mikil lyftistöng í áranna rás. Allir aðrir flokkar en VG töluðu fyrir því að með markaðsvæðingu ríkisbankanna hæfust nýir tímar.

26. Apríl 2003

Spurt um kosningaáherslur

Er mikið að pæla í að kjósa ykkur, en ég hef svolítið verið að pæla í þessari fyrningarleið og hef mínar efasemdir um hana að því leyti að þetta verði of mikið ríkis- og sveitarfélagabatterí og hvort að kunningja- og hagsmunatengsl eigi ekki eftir að ráða miklu líka ef sú leið verður farin. Er líka dauðhræddur við það ef Frjálslyndi flokkurinn fær sjávarútvegsráðuneytið af því að mínu mati fara þeir alltof hratt í breytingarnar og mikil hætta verður á að ofveiði.
Kveðja, Hinrik Jón Stefánsson

26. Apríl 2003

Framhaldsskólar á markað

Sæll.
Hvað finnst þér um þessa frétt? http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1028023
Kveðja, Sigurður

25. Apríl 2003

Jón Karl Stefánsson skrifar: Mordechai Vanunu

Sá dagur verður að koma að vopnaeign Ísraela og sú ógn sem af Ísraelsríki stafar komist í umræðuna.  Þeir sem fylgja blint stefnu núverandi valdhafa heimsins verða líka að svara fyrir tvískinnungshátt herra sinna.

25. Apríl 2003

Kveðja frá frjálshyggjumanni

Sæll Ögmundur, Ég vildi einungis óska þér alls hins besta í komandi kosningum. Sjálfur er ég eindreginn frjálshyggjumaður - en ég ber virðingu fyrir þér og öðrum sem ekki eru umbúðinar einar eins og Samfylkingin.
Ásgeir Gylfason

24. Apríl 2003

Jón Karl Stefánsson skrifar: Ísland ehf.

Veruleiki okkar er að miklu leyti ákvarðaður af fólki sem á eða hefur völd yfir miklu fé.  Þrátt fyrir að lýðræðislegar stofnanir eins og Alþingi og sveitarstjórnir hafa sjálfar mikið vald eru margar mikilvægustu ákvarðanir sem snerta almenning teknar á lokuðum fundum, handan afskipta þess.  Nú er til að mynda orðið ljóst að Búnaðarbankinn og Kaupþing hafa ákveðið að sameinast svo úr verður einhver mesta samþjöppun valds og fjármuna í íslenskri sögu. 

24. Apríl 2003

Lýðræðið er í húfi

Grunntónninn í grein  Jóns K. Stefánssonar, sem birtist á heimasíðunni í dag, en hann hefur áður skrifað í nafni frjálsra penna hér á síðunni, er að minna á að baráttan í þjóðfélaginu er á milli fjármagnsaflanna annars vegar og lýðræðis og hagsmuna almennings hins vegar. Grein Jóns heitir Ísland ehf. Titillinn ætti strax að verða okkur umhugsunarefni.

24. Apríl 2003

Þjóðaratkvæðagreiðslu um herinn

Kæri Ögmundur! Nú þegar bandarísk stjórnvöld hafa að mestu kastað lýðræðisgrímunni - a.m.k. hvað alþjóðasamfélagið snertir - og bandaríski herinn fremur níðingsverk í fjarlægum löndum er ekki kominn tími til að hefja baráttuna gegn veru þessa sama hers hér á landi aftur hærra í umræðuna?
Bestu kveðjur, Haukur Þorgeirsson

24. Apríl 2003

Stjórnarmyndun og Evrópusambandið

Sæll Ögmundur. Segjum sem svo að loksins komist hér á velferðarstjórn undir forystu Samfylkingar eftir kosningar. Samfylkingin myndi síðan á kjörtímabilinu sækja um aðild að esb. Myndir þú þá sem forystumaður í VG beita þér fyrir því að fella velferðarstjórnina og hleypa þá hægri stjórn hér aftur að með tilheyrandi afleiðingum.
Ármann Atli Sigurðsson

24. Apríl 2003

Staða Íslands eftir 10-20 ár

Daginn. Langar að spyrja þig. Hvernig sérðu fyrir þér stöðu Íslands í heimsmálum eftir 10-20 ár? Ég er þá að meina t.d. innganga í Evrópusambandið eða úrsögn úr NATO og þess háttar. Takk og bæ.
Bjarni Sveinsson

23. Apríl 2003

Svar prófessors

Í fyrradag fjallaði fréttastofa Sjónvarpsins (RÚV) um grein mína hér á síðunni, Pólitískir prófessorar, frá 17. apríl, og var ég fenginn til að skýra sjónarmið mín í viðtali. Í gær var síðan viðtal við Svan Kristjánsson prófessor í stjórnmálafræði við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Svanur telur gagnrýni mína ekki vera á rökum reista. Ég sé að gagnrýna sendiboðann, fræðimanninn sem sé að lýsa veruleikanum.

21. Apríl 2003

Þegar hugsað er í árþúsundum

Sem betur fer er fjöldi erlendra fréttamanna í Írak sem færa okkur fréttir af framferði innrásarherjanna.  Auðvitað er alvarlegast hvernig fólk hefur verið myrt, raforkuverin eyðilögð, vatnsbólin að sama skapi, landið stráð sprengjum sem bíða þess að fætur stigi á þær til að valda limlestingu og eyðileggingu, krabbameinsvaldandi efnum dreift um stór svæði með sprengiregni, sem á eftir að drepa og afskræma um langt árabil. Allt þetta eru stríðsglæpir sem aldrei verða fyrirgefnir, því menn vita hvað þeir eru að gera; þetta er gert að yfirveguðu ráði.

20. Apríl 2003

Vefurinn oft áhugaverðari en fjölmiðlar

það er margt áhugavert á vefnum og  margt óáhugavert í helstu fjölmiðlum.  Mig langar tilað vekja athygli á vefslóð frá fyrrum hermönnum Bandaríkjahers og hefur fjöldi annarra hermanna skrifað undir plaggið (sjá til vinstri á vefslóðinni sem ég sendi með þessu bréfkorni). Þeirra sjónarmið eru sérstaklega áhrifarík finnst mér þar sem þeir hafa tilheyrt heilaþvegnasta hópi Bandaríkjanna, hernum.  http://www.calltoconscience.net/
með kveðju
Þórdís

19. Apríl 2003

Fiskifræðingurinn

Forsætisráðherra er sitthvað til lista lagt. Hann stundar pólitík, skrifar sögur og nú er hann kominn á kaf í fiskifræði. Hann lýsti því yfir á fundi norður í landi fyrir nokkrum dögum að óhætt væri að auka þorskkvótann um þrjátíu þúsund tonn á næsta ári. "Byggir þetta á yfirlýsingu frá Hafrannsóknarstofnun", spurðu fréttamenn. "Nei, það er ég sem er að segja ykkur þetta", sagði hinn nýbakaði fiskifræðingur.

19. Apríl 2003

Útlit fyrir batnandi menntun og lækkandi komugjöld fram til ársins 2010

Sæll Ögmundur.
Embættismenn koma alltaf á óvart. Nú hafa undirmenn Geirs H. Haarde sent frá sér vorskýrslu um efnhagsmálin til 2010. Ánægjulegt að bjart er framundan og launamenn skuli nú sjá fram á lækkandi skatta og hækkandi laun um ókomin ár!!!
Ólína

19. Apríl 2003

Verður Stjórnarráðið flutt til Borgarness eða í félagsvísindadeild?

Það er merkilegt hvað forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar gerist glöggsýn þegar hún ríður um Borgarfjarðarhérað. Þetta gerist einkum og sér í lagi á þingfundum hennar í Borgarnesi – þá er eins og hún öðlist svo mikið innsæi í vandamál þjóðfélagsins að engu er líkara en hún hafi þúsund augu – eða nákvæmlega eins mörg og löndin eru í “Nallanum” sem við róttæklingarnir syngjum af heilum hug á 1. maí.
Þjóðólfur

18. Apríl 2003

Írak úr ýmsum áttum

Ríkisstjórn Íslands hefur lýst því yfir að hún vilji kosta nýja gervilimi á lítinn dreng sem var limlestur í árásunum á Írak. Fjölskylda hans var öll drepin og heimili lagt í rúst. Það er í sjálfu sér þakkarvert að ríkisstjórnin skuli með þessu finna til ábyrgðar á afleiðingum árásanna á Írak en þær eru sem kunnugt er gerðar með fullu samþykki ríkisstjórnar Íslands. Ekki er vitað hve marga Bandaríkjamenn og Bretar hafa þegar myrt í árásunum en ljóst er að auk þeirra sem innrásarherirnir hafa drepið er mikill fjöldi fólks sem hlotið hefur örkuml fyrir lífstíð.

18. Apríl 2003

Samfylkingarprófessorarnir í HÍ og RÚV

Blessaður Ögmundur.
Loksins, loksins var á þetta bent!!!! Ég þakka þér fyrir greinina á vefsíðunni um hina pólitísku prófessora sem kallaðir eru í fjölmiðla alltaf fyrir kosningar undir því yfirskini að þeir séu að varpa fræðilegu ljósi á kosningabaráttuna. Um mjög fáa einstaklinga er að ræða en þeir eru allir því marki brenndir að vera Samfylkingarmenn með stóru essi.
Þorvarður

17. Apríl 2003

Pólitískir prófessorar

Mig langar til að koma tillögu á framfæri við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands: Nemandi í framhaldsnámi fái sem rannsóknarverkefni fyrir doktorspróf að kortleggja samspilið á milli kosningabaráttu Samfylkingarinnar og yfirlýsinga kennara við félagsvísindadeildina. Mér virðist þetta jafnan smella sem flís við rass. Prófessorarnir eru iðulega fengnir til að tjá sig um kosnigabaráttuna og kosningar í fjölmiðlum í því augnamiði að varpa "fræðilegu" ljósi á það sem er að gerast.

17. Apríl 2003

...þá tek ég flugið og fæ mér reyk...

Sæll Ögmundur.
Sýrland er þeim ofarlega í huga núna og ósjálfrátt læt ég hugann reika tæp þrjátíu ár aftur í tímann og þá er svo merkilegt að þessi textalína úr Bláum skugga kemur ósjálfrátt í hugann og ég spyr mig: Ætli þeir séu ekki á einhverju mennirnir?
Ólína

16. Apríl 2003

Hvers vegna Fjórða heimsstyrjöldin?

Hvernig stendur á því að öfgafyllstu stríðsæsingamennirnir í kringum Bush Bandaríkjaforseta tala um að Fjórða heimsstyrjöldin sé hafin? Skýringin er sú að fyrst hafi orðið tvær heitar styrjaldir og síðan sé Kalda stríðið þriðja heimsstyrjöldin. Hin fjórða sé hafin og standi hún á milli Bandaríkjanna og Breta annars vegar og strangtrúaðra Múhameðstrúarmanna hins vegar.

16. Apríl 2003

DV tekur afstöðu

Hans Blix yfirmaður kjarnorkueftirlits Sameinuðu þjóðanna í Írak hefur lýst því yfir að Bandaríkjastjórn hafi blekkt eftirlitsmennina og að ætla megi að árásin á Írak hafi verið löngu ákveðin. Af hálfu Bandaríkjamanna hafi eftirlitið verið sýndarleikur. Blix gekk miklu lengra í yfirlýsingum sínum og talaði um miklar mannfórnir og eyðileggingu landsins.

16. Apríl 2003

Allir geti smíðað sér gæfu

Viðtal í VG Umbúðalaust, kosningablaði VG í Reykjavík 
Hver er sinnar gæfu smiður, ekki satt?
Mér var innrætt í æsku að lífið byrjaði ekki á morgun heldur væri það byrjað og að allt skipti máli og okkur bæri að nýta tímann vel. Við verðum að láta gott af okkur leiða. Lífið er hinsvegar að hluta háð aðstæðum og margt í því sem við ráðum ekki við. Við fæðumst inn í mismunandi aðstæður, sumir í fátækt, aðrir í auðlegð og að sjálfsögðu hefur þetta áhrif á hvaða möguleika við höfum til að móta líf okkar. Á vegi margra eru fjölmargir þröskuldar. Þá þarf að fjarlægja svo allir geti smíðað sér gæfu. Það er líka sameiginlegt verkefni. Okkur líður öllum betur ef við byggjum á samkennd en ekki einkahyggju.

16. Apríl 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Menningarverðmæti þurrkuð út

Er kominn tími til að breyta um heiti á þessum pistlum? Munið þið fá Sýrlandspistla í nánustu framtíð? Eins og þið hafið væntanlega tekið eftir hafa bæði Rumsfeld og Bush beint athyglinni að Sýrlandi. Nú eru skyndilega komnar fram ásakanir að Sýrlendingar eigi gjöreyðingarvopn og að hryðjuverkamenn séu hýstir innan landamæra þess. Á nú að beina spjótum Bandaríkjahers þangað?

15. Apríl 2003

Plebbar

Eitt nýtt hugtakið sem tekið er upp í frábærri nýrri útgáfu Íslenskrar orðabókar er hugtakið plebbi. Plebbi er ómenningarlegur eða lágkúrulegur maður. Hvor merkingin sem er virðist lýsa vel þeim stjórnmálamönnum, hugmyndafræðingum og herfræðingum sem nýttu sér hræðilega atburði í New York haustið 2001 til endanlegrar valdatöku vestur í Bandaríkjunum.
Ólína

15. Apríl 2003

Góð lesning, en hvar eru fréttamenn?

Ungur drengur í Írak birtist á sjónvarpsskjá. Hann liggur á sjúkrahúsi, handalaus og litli búkurinn sundurtættur. Hann talaði sem gamall vitur maður. Hann kvaðst sakna handanna sinna því hann þyrfti að vinna. Hann hafði misst móður og systkini í sprengjuárás innrásarherjanna; hermanna sem segjast vera komnir til að frelsa fólk. Ólína skrifar um þessa frelsara í lesendabréfi í dag undir fyrirsögninni: Plebbar. Bréf Ólínu er áhrifaríkt og hvet ég alla til að lesa það.
Colin Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom einnig fram í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi, rétt á undan litla drengnum.

15. Apríl 2003

Hættan er frá hægri

Fram kom nú nýverið fyrirspurn um slagorð fyrir VG. Hvernig væri að að taka upp um 30 ára gamalt slagorð frá íhaldinu, Varist vinstri slysin, bæta við það og segja: Hættan er frá hægri, vörum okkur á íhaldsstjórnum.
Guðjón Jensson

15. Apríl 2003

Hvenær þjóðaratkvæðagreiðslu?

Kæri þingmaðurinn minn. Í grein þinni á vef flokksins, vg.is, Milliliðalaust lýðræði viðrar þú þá hugsun að láta almenning meira í té vald til að velja og hafna. Þarna verð ég að vera þér bæði sammála og ósammála.
kv. gunns

14. Apríl 2003

Bandarísk mannréttindasamtök láta að sér kveða

Í fjölmiðlum vestan hafs og austan keppast gagnrýnir fréttamenn við að fletta upp ummælum helstu haukanna í ráðuneyti Bush Bandaríkjaforseta nokkur ár aftur í tímann. Í ljós kemur að menn á borð við Richard Pearl, sem á sæti í ráðgjafaráði Pentagons ( bandaríska stríðsmálaráðuneytisins), Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra og Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráherra og margir fleiri hafa um árabil hvatt til árása á Írak til að gæta olíuhagsmuna bandarískra fyrirtækja.

14. Apríl 2003

Við erum boðberar mikillar framfarasóknar

Viðtal  í Fréttablaðinu 12.apríl
Ögmundur Jónasson þinflokksformaður Vinstri grænna, formaður BSRB og fyrrverandi fréttamaður í viðtali um stjórnmál, stríð og mögulegt ríkisstjórnarsamstarf að loknum kosningum.

14. Apríl 2003

Við erum tæki kjósenda

Tvær spurningar: 1. Má treysta því að heilbrigðiskerfið verði bætt verulega ef þið komist í ríkisstjórn? 2. Eru einhver mál sem þið ætlið að láta steyta á ef þið komist í stjórn?
mkv Hálfdan

14. Apríl 2003

Pólar í pólitík

Sæll Ögmundur, Mér finnst gaman að fylgjast með síðunni þinni. Mig langar að spyrja þig um eitt. Steingrímur J. Sigfússon sagði í þætti sem ég horfði á, að VG ætti sér engan höfuðandstæðing. Hann endurtók þetta svo aftur. Ég hafði hins vegar alltaf litið svo á að höfuðandstæðingur VG væri Sjálfstæðisflokkurinn. Er það ekki rétt munað hjá mér að þú hefur oftar en einu sinni sagt opinberlega að Sjálfstæðisflokkurinn væri höfuðandstæðingur þíns ágæta flokks? Ég ætla rétt að vona að þú hafir ekki skipt um skoðun á því.
Bestu kveðjur, Þinn gamli baráttufélagi í mörgum góðum slagnum, Magnús H. Skarphéðinsson

13. Apríl 2003

Hvers vegna sjómenn ættu að styðja VG

Sjómannablaðið Víkingur var að koma út og birtust þar eftirfarandi spurningar blaðsins og svör ÖJ.
1. Af hverju ættu sjómenn að kjósa þinn flokk frekar en annan? 
2. Styður flokkurinn áframhaldi framsal á óveiddum fiski?
3.  Er eðlilegt að sami aðili sé seljandi og kaupandi að fiski sem kemur að landi?
4.  Er ekki nauðsynlegt að gripið verði til aðgerða, líkt og gert hefur verið á Norðurlöndum, til að flagga íslenska kaupskipaflotunum heim? 

13. Apríl 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Skeið ringulreiðar

Er stríðinu lokið og tekur nú friðurinn við? Þó að ýmsir hafi borið saman atburði miðvikudagsins við fall Berlínarmúrsins er það langt í frá að fall styttunnar á Fardús torginu í Baghdad tákni að stríðinu sé þar með lokið. Þessi atburður var vissulega táknrænn. Og það er hægt að lesa heilmikið út úr honum svo sem að ríkisstjórn Hussein hefur að mestu leyti misst öll völd. En það sem þetta táknar einna helst er að þetta stríð er nú komið á nýtt stig – skeið ringulreiðar, stjórnleysis, og óaldar.

13. Apríl 2003

Það er engin skýring nógu góð

Ávarp á Friðarsamverustund í Fríkirkjunni í Reykjavík 11.apríl.
Farísear spurðu hann, hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: "Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því beri. 21Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það, því Guðs ríki er innra með yður." (Lúkas 17. kap. 20-21)

13. Apríl 2003

Um kvótamálið

Jú sæll. Var að velta fyrir mér kvótamálinu. Þar sem lögmæti mitt liggur án alls efa með stjórnmálahreyfingu Vinstri grænna, þá brennur eitt á mér. Málið er það að hvernig ég get útlistað skýrmerkilega fyrir fólki réttmætinguna á því taka kvótann til baka. Það reynist mér ekki erfitt að skilja en fyrir þeim sem ég þarf að útskýra stend ég sjálfur oft á gati. Ég þekki smáútgerðarmenn sem hafa unnið harðri hendi við að kaupa sér kvóta undanfarin ár og komið sér upp ágætis útgerð. Hvað réttlætir það að þeir verði að skila fengnum hlut til baka, kvóta sem þeir hafa keypt sér og unnið fyrir hörðum höndum.
M.kv. Gunnar Sig

11. Apríl 2003

"Upplýsingaráðherra" opnar sig

Sæll Ögmundur.
Sá sem Dónald Rúmsfeldt ætlaði að gera að nýjum “upplýsingaráðherra” Íraks, James Woolsey, fyrrverandi forstjóri leyniþjónustu miðstjórnarinnar bandarísku (Central Intelligence Agency) viðrar hugmyndir sínar um hernaðarsigurinn í Írak í fyrradag m.a. í breska blaðinu Guardian. Hann gerir því skóna að Íraksstríðið hafi verið meira en rétt og slétt barátta gegn hryðjuverkum. 
Ólína

11. Apríl 2003

Kim Il Ásgrímsson

Mörgum brá í brún þegar þeir óku Suðurlandsbrautina fyrir fáeinum dögum. Hús eitt ofarlega við brautina hafði nánast verið betrekt með risastórum myndum af Halldóri Ásgrímssyni formanni Framsóknarflokksins og Jónínu Bjartmarz  frambjóðanda flokksins hér í Reykjavík. Ég sá fyrst þessar myndir kvöldið sem Sjónvarpið sýndi styttuna af Saddam Hussein fellda af stalli í Bagdad. Ef til vill voru hughrifin sterkari fyrir bragðið.

10. Apríl 2003

Jón Torfason skrifar: Ég sakna Þjóðviljans

Fyrir nokkrum árum flutti eitt af ungskáldum Íslendinga og þekktur pistlahöfundur erindi í útvarpinu og sagði þá meðal annars: “Ég sakna Þjóðviljans ekki,” ef rétt er munað. Í framhaldinu ræddi hann svo hvað Þjóðviljinn hefði verið ómerkilegt blað og fann honum margt til foráttu, þó einna helst það að hann hefði ferið flokksblað og þjónað Alþýðubandalaginu.

10. Apríl 2003

Er Framsóknarflokkurinn á leiðinni í ræsið?

“Vinna, vöxtur, velferð” er kosningaslagorð Framsóknarflokksins að þessu sinni og eflaust hannað af einhverjum húmoristum í auglýsingaiðnaðinum. Framsóknarflokkurinn berst nú allra ötulast fyrir einkavæðingu á rafmagnsveitum landsmanna, vatnsveitum og meira að segja skólpveitunum.
Karl Ormur Skólpnes

10. Apríl 2003

Hvert stefnir í íslenskri fjölmiðlun?

Á stundum eins og nú reynir mjög á fjölmiðla. Bandaríkin og Bretland herja á Írak og bæði bandarískir og breskir  fjölmiðlar fylgja ríkisstjórnum sínum mjög að málum. Íslenskir fjölmiðlar eru svo aftur háðir engisaxneskri fjölmiðlun á heimsvísu. Það heyrir til undantekninga að þeir brjótist út úr áróðursmaskínunni (Spegillinn, Útvarp Saga o.fl. hafa þó átt góða spretti). Jón Torfason skrifar mjög athyglisverða fjölmiðlagagnrýni á vefsíðuna í dag þar sem hann tekur á þessum málum.

8. Apríl 2003

Skattastefna VG er ávísun á kjarabætur

Birtist í Mbl. 07.04.2003
EKKI veit ég hvort einhver 1. apríl galsi var í leiðarahöfundi Morgunblaðsins síðastliðinn þriðjudag eða hvort blaðinu var alvara í greiningu sinni á skattastefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.

7. Apríl 2003

Hver vill einkavæða Gvendarbrunnana?

Fyrir nokkrum dögum hlustaði ég á viðtal við kunnan og ágætan blaðamann í sjónvarpi. Hann sagðist ekki betur sjá og heyra en að "allir" væru komnir á þá skoðun að rétt væri að einkavæða innan grunnþjónustu samfélagsins. Vísað var í ályktanir Alþýðusambands Íslands þar sem talað væri um mikilvægi þess að tryggja mismunandi rekstrarform í heilbrigðiskerfinu og að allir flokkar væru á þessu máli – nema þá Vinstrihreyfingin grænt framboð.

7. Apríl 2003

Vinsamleg árás

Bandarískar og breskar innrásarsveitir í Írak kalla það "vinsamlega árás" þegar þeir ráðast fyrir mistök á eigin menn ("friendly fire incident"). Nokkrar slíkar "vinsamlegar árásir" hafa verið gerðar á undanförnum dögum, nú síðast á breska fréttamenn og sveitir Kúrda um helgina.

4. Apríl 2003

Andlit stríðsins


Stuðningsmönnum stríðsins hér á landi ber skylda til að horfast í augu við afleiðingar gerða sinna. Þeir verða að axla siðferðilega ábyrgð. Hægan, hægan kann einhver að segja. "Ekki berum við ábyrgð á stríðinu". Jú, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn styðja árásarstríðið.

4. Apríl 2003

Ofsóknir Tyrkja á hendur Armenum og Kúrdum

Sæll Ögmundur.
Ég hef frá barnæsku heyrt um þjóðarmorð Tyrkja á Kúrdum og Armenum. Það kallast í dag glæpir gegn mannkyni. Eru Davíð og Halldór búnir að samþykkja aðför tyrkja nú að Kúrdum. Þá væri rétt að kæra þá fyrir glæpi gegn mannkyni (Davíð og Halldór).
Kveðja,G.Sv.

4. Apríl 2003

Sveinn Rúnar Hauksson skrifar: Palestína í skugga olíustríðs


Draumórar heimsvaldasinna, martröð Íraka
 
Þess var að vænta að örlög palestínsku þjóðarinnar, hernám lands þeirra og áframhaldandi morð á saklausu fólki, féllu í skuggann þegar fjölmiðlarisarnir færu að dansa í takt við stríðsherrana í Washington og kjölturakkann í Lundúnum.

4. Apríl 2003

Nýr Berlínarmúr?

Fyrir  nokkrum mánuðum héldum við fjöldafundi til að mótmæla hernaðarofbeldi og mannréttindabrotum gegn Palestínumönnum. Baráttumenn fyrir mannréttindum beina sjónum sínum nú fremur að Írak enda Palestína í skugga olíustríðs. Það er heitið á grein Sveins Rúnars Haukssonar læknis, formanns félagsins Ísland-Palestína sem birtist í Frjálsum pennum hér á síðunni í dag.

4. Apríl 2003

Raunsæ leið til kjarabóta

Birtist í Fréttablaðinu 04.04.2003
Sannast sagna átti ég ekki von á því að stjórnarflokkarnir tveir gerðu sig seka um eins mikil yfirboð og raun hefur orðið á. Framsókn reið á vaðið, skelfingu lostin yfir slæmri útreið í skoðanakönnunum, og bauð upp á skattalækkanir og aukin ríkisútgjöld sem flokkurinn segir sjálfur að komi til með að kosta fimmtán milljarða á ári. Sjálfstæðisflokkurinn bætti um betur og hækkaði tilboð sitt til kjósenda um væna fimm milljarða. Það er svipuð upphæð og varið er til félagslegra ráðstafana í gegnum Félagsmálaráðuneytið á heilu ári.

3. Apríl 2003

Jón Karl Stefánsson skrifar: Nokkrar smávægilegar staðreyndir um stríð í Írak

Hvað þýðir stríð gegn Írak (eða eins og kanarnir segja, stríð gegn Saddam Hussein)?
Líklega létust á milli 80000 og 150000 hermenn og 100000 og 200000 óbreyttir borgarar í Persaflóastríðinu. Í kjölfarið fylgdi viðskiptabann sem gerir ráð fyrir að 10000 krónur eigi að fæða og klæða eina manneskju í heilt ár.

3. Apríl 2003

Frábær Jón Karl Stefánsson

Í Morgunblaðinu 31. mars sl. birtist stutt grein eftir Jón Karl Stefánsson um stríðið gegn Írak og þó einkum afleiðingar viðskiptabannsins, sem hvílt hefur á Írökum í rúman áratug með hörmulegum afleiðingum.

2. Apríl 2003

Einar Ólafsson: Rangfærslur Samfylkingarinnar um aðdraganda loftárásanna á Júgóslavíu 1999

Gott er nú til þess að vita að Samfylkingin hefur tekið afstöðu gegn innrásinni í Írak. En spurt hefur verið: Er ekki eitthvert misræmi í því að Samfylkingin skuli taka þessa afstöðu nú þar sem sá vísir að þessum flokki sem til var í mars 1999 studdi loftárásirnar á Júgóslavíu? Einkum hafa Sjálfstæðismenn verið iðnir við að spyrja þessarar spurningar. Að undanförnu hefur hver Samfylkingarmaðurinn af öðrum stigið fram og útskýrt þetta misræmi, bæði í blöðum og ljósvakamiðlum.

2. Apríl 2003

Loftárásir nú og þá

Sjálfstæðisflokkurinn hefur núið Samfylkingunni því um nasir að vera ekki alltaf sjálfri sér samkvæm varðandi beitingu hervalds og er þá vísað annars vegar í gagnrýni á árásirnar á Írak og hins vegar í stuðning talsmanna Samfylkingarinnar við loftárásir Nató á Balkanskaga vorið 1999.

1. Apríl 2003

Páll H. Hannesson skrifar: Trúverðugur fréttaflutningur?

Ólafur Sigurðsson fréttamaður Sjónvarpsins var með frétt í sjónvarpinu í gærkvöldi, mánudaginn 31. mars um Írak. Hófst fréttin á staðhæfingu um að áróðursstríðið væri tapað og hefði öllum verið það ljóst fyrirfram að svo færi.

1. Apríl 2003

Kjördæmin ákveða hvernig valið er á lista

Mig langar að spyrja þig og alla sem eru í flokknum, hvernig veljið þið á listann? Er prófkjör eða hvernig gerið þið þetta. Ég er að vinna verkefni í skólanum mínum og finn ekki svarið á heimasíðunni ykkar.
Nemandi

1. Apríl 2003

Miðja með hægri slagsíðu

Heill og sæll Ögmundur. Hvernig líst þér á þá á tilhugsun að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi ríkisstjórn að afloknum kosningum í vor? Það var t.d. ekki annað að heyra á Margréti Frímannsdóttur í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins en að sá kostur væri hvað mest heillandi í ranni Samfylkingarinnar á þessum tímapunkti. Einhverntímann heyrði ég að helsta markmið Samfylkingarinnar væri að koma íhaldinu frá völdum á Íslandi, en það hefur líklega verið einhver misskilningur hjá mér, eða hvað?
Jóhannes Ragnarsson

1. Apríl 2003

Atvinnulausum ber að tryggja bærileg laun

Ég er atvinnulaus í fyrsta sinn í 42 ár og finnst það svakalegt. Mig langar að fá í umræðuna að 6000 atvinnuleysingjar sem sagðir eru njóta bóta greiða 2700 kr. í staðgreiðslu það sinnum atvinnulausir færa okkar auma ríkiskassa 16,2 millj. á mánuði.
Kveðja, SSG.

1. Apríl 2003

Gagnrýni á fréttastofu Sjónvarps

Fréttastofa Ríkisútvarpsins er gagnrýnd harðlega í fjölmiðlagagnrýni Páls H. Hannessonar hér á síðunni í dag. Öllum er ljóst að á fréttamönnum hvílir mikil ábyrgð. Miklar upplýsingar berast þeim en samkvæmt venju er ekki á allt treystandi sem frá stríðandi öflum kemur.

1. Apríl 2003

Rettlæti á dagskrá

Sæll!
Ég er í framhaldsskólanum á Laugum og er í félagsfræðiáfanga sem er stjórnmálafræði. Ég var að velta því fyrir mér hvert slagorð Vg væri.
Svanhvít

31. Mars 2003

Öryrkjabandalaginu óskað til hamingju

Í lesendabréfi í dag er ég spurður áleitinnar spurningar. Spurt er hvað mér finnist um þá ákvörðun Framsóknarflokksins að skrifa undir samkomulag við Öryrkjabandalagið um breytingar á örorkulífeyri sem koma eiga til framkvæmda á næsta kjörtímabili.

31. Mars 2003

Eins og blautur sandpoki

Sæll Ögmundur.
Ósköp þykja mér fjölmiðlarnir okkar oft vera sofandalegir. Eða getur það verið að mér einum finnist undarleg framkoma Framsóknarflokksins við öryrkja og samtök þeirra?
Öryrki 

31. Mars 2003

Lævís leikur

Kæri Ögmundur.
Ég vil byrja á því að þakka fyrir öflugt starf sem mér finnst þú vera að vinna. Það sem vakir fyrir mér er afstaða Íslands í Íraksstríði. Fyrir utan það að lögmæti ríkisstjórnarinnar er ekkert í þessu máli, eins og mörgum öðrum, þar sem einungis þriðjungur þjóðarinnar telur að afstaða Íslands í þessu skítamáli öllu sé réttlætanlegt, þá tel ég að kafa verði aðeins dýpra í málið. 
Kv. Gunnar Sigurðsson 

31. Mars 2003

Davíð flytur stolinn leirburð á landsfundi

Ekki hefði ég nú trúað því að óreyndu að forsætisráðherra færi að veifa stolnum fjöðrum til að halda landsfundarfulltrúum sínum vakandi yfir þeim ræðudoðranti sem hann þuldi yfir félögum sínum. Inn á milli þeirra náttúruhamfara sem hann boðaði þjóðinni ef hægrimenn héldu áfram völdum stakk hann kvæðum og kviðlingum, fáeinum til dálítillar uppörvunar, og m.a. þessum:
Jón Bisnes

30. Mars 2003

Er Blair Framsóknarmaður?

Halldór Ásgrímsson var á meðal gesta í Silfri Egils á Skjá einum í dag. Fram kom að honum hafi þótt ákvörðun um að styðja Bandaríkjamenn og Breta til árása á Írak erfið. En stundum þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir sagði utanríkisráðherra. Mér er spurn: væri ekki nær að spyrja hvers vegna þessar ákvarðanir voru svona erfiðar?

30. Mars 2003

Konan í Hafnarfirði

Fréttamenn Kastljóss fóru silkihönskum um Davíð Oddsson forsætisráðherra að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Lengi vel spjallaði forsætisráðherra um Íraksmálið og bar sig mannalega. Íslendingar væru þjóð sem stæði í fæturna.

28. Mars 2003

Spurningar til Davíðs og Halldórs

Birtist í DV 27.03.2003
Í viðtali um árásirnar á Írak við DV síðastliðinn föstudag segir Davíð Oddsson forsætisráðherra að spurningin snúist um það hvort menn ætli "að standa með okkar helstu bandalagsþjóðum eða í raun með Saddam Hussein..." Þetta þýðir á mannamáli að þeir sem andæfa árásunum á Írak séu stuðningsmenn einræðisherrans Saddams Husseins

28. Mars 2003

Förum nýjar leiðir

Ræða flutt á fundi í Austurbæjarbíói 27.03. 2003
Góðir félagar úr baráttunni.
Við komum nú saman til að spila, syngja, lesa og tala fyrir friði og gegn hernaðarofbeldi og gegn stríði.

28. Mars 2003

Magnús Þ. Bernharðsson skrifar: Stríð og söguleg arfleifð

Er glasið hálftómt eða hálffullt? Enn er deilt hér í Bandaríkjunum um hvort að vel gangi í stríðinu eða ekki. Nokkrir ahrifamiklir einstaklingar hafa gagnrýnt stríðsreksturinn svo sem Wesley Clark, sem stjórnaði aðgerðum NATO í Kosovo, og Barry McCaffrey, sem var einn af æðstu mönnum í her Bandaríkjanna í Persaflóastríðinu 1990-91.

28. Mars 2003

Kristján svarar Davíð

Flokksþing Sjálfstæðisflokksins er hafið með hefðbundnum hætti í Laugardagshöll. Flokknum er skýrt frá því hvað honum finnist í öllum málum og síðan farið með ljóð og vísur aðallega andstæðingunum til háðungar. Davíð Oddsson formaður vitnaði í ræðu sinni í svohljóðandi vísu Hjálmars Jónssonar frá '99

27. Mars 2003

Magúns Þ. Bernharðsson skrifar: Hugleiðingar um stríðið

Það er kannski verið að bera í bakkafullan lækinn að ræða enn frekar um stöðuna í Írak. Þið hafið væntanlega ekki undan að fylgjast með öllum fréttunum þaðan nú uþb viku frá því að stríðið hófst fyrir alvöru.  Það er ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir hvað hefur gerst og hvernig málin muni þróast á næstunni.

26. Mars 2003

Upplýsing komi í veg fyrir blekkingar

Sannleikurinn er vandfundinn þegar stríð geisar. Í umfjöllun um fjölmiðla sem kom inn á vefsíðuna í gær segir Páll H. Hannesson: “Það er gömul klisja að fyrsta fórnarlamb stríðsátaka sé sannleikurinn. Staðhæfingin væri sönn nema hvað hún gefur í skyn að utan stríðstíma sé sannleikurinn sagður.” Þetta er rétt hjá Páli nema hvað í stríði verður allt ýktara en ella líka lygin. Og í stríði er mikið logið.

26. Mars 2003

Falsanir notaðar sem röksemdir fyrir innrás

Ein af þeim röksemdum fyrir stríði í Írak sem Bush Bandaríkjaforseti og helstu haukarnir í kringum hann báru á borð fyrir eigin þjóð og umheiminn, var sú að Írakar stefndu að kjarnorkuvopnaframleiðslu.
Helgi

26. Mars 2003

Samviska utanríkisráðherra og lýðræðið

Sitthvað athyglisvert kom fram í fréttum útvarps- og sjónvarpsstöðva í dag og vil ég þar sérstaklega nefna fréttaskýringu Friðriks Páls Jónssonar á fréttastofu Ríkisútvarpsins um stuðningsmannahóp Bush Bandaríkjaforseta í Speglinum og viðtal við Steingrím Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra um sama efni.

25. Mars 2003

Veit ríkisstjórn Íslands hverja hún er að styðja?

Ráðandi stjórnmálaöfl í Bandaríkjunum telja að kynþáttabundinn sýklahernaður gæti orðið "nýtilegt pólitískt verkfæri" á komandi öld. Getum við lagt trúnað á þetta? Já við getum það og fjallar þessi grein um það og þá miklu gagnrýni sem er að rísa um heim allan á stríðsrekstur Bandaríkjamanna, einnig í Bandaríkjunum, og þá af hálfu hægri manna ekki síður en þeirra sem standa til vinstri.

25. Mars 2003

Í tilefni Morgunblaðsleiðara

Birtist í Mbl. 24.03.2003
Morgunblaðið spyr í leiðara fimmtudaginn 20. mars hvers vegna Íslendingar eigi að veita Bandaríkjamönnum stuðning í árásum þeirra á Írak. Í leiðaranum sem er óvenju fyrirferðamikill er reynt að svara þessu. Í fáum orðum er röksemdafærslan á þessa leið: Bandaríkjamenn hafa verið okkur góðir í gegnum tíðina.

25. Mars 2003

Páll H. Hannesson skrifar: Að smána fána og skera úr mönnum tunguna

Bandarískir og breskir ráðamenn hafa haft langan tíma til að undirbúa jarðveginn að því stríði sem nú er háð í friðarins nafni og réttlætisins. Og þeir hafa tekið sér góðan tíma til að fóðra sér vinveitta ráðamenn á réttum upplýsingum.

25. Mars 2003

Varnaðarorð SÞ og fjölmiðlagagnrýni

Fréttir berast nú frá Írak um neyðarástand víða í landinu. Alvarlegur vatns- og rafmagnsskortur er í borginni Basra sem Bandaríkjamenn og Bretar sitja nú um.  Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segja að eitt hundrað þúsund börn undir fimm ára aldri í borginni séu í lífshættu vegna vatnsskorts og meltingarsjúkdóma.

24. Mars 2003

Hvað er verið að gera úr okkur?

Íslenski fáninn er brenndur á götu í Kaupmannahöfn, utanríkisráðherrann segir nánast að Alþingi komi ekki við stefnumótun ríkisstjórnarinnar varðandi hlutdeild okkar í árásunum á Írak. En áður en lengra er haldið ætla ég að vitna í sóknarprestinn í Neskirkju í Reykjavík: "NATO dregur okkur lengra og lengra inní hættulegan stríðsleik.

24. Mars 2003

Verkalýðsbarátta í öndvegi

Sæll Ögmundur. Ég horfði nýlega á þáttinn Ísland í dag á stöð 2 og þar var meðal annars viðtal við Þóreyju Eddu sem er í framboði við VG í suðvestur kjördæmi.  Þar gerði hún lítið úr þeim störfum sem verða til í álveri á Reyðarfirði þar sem þetta verði nánast eingöngu störf fyrir verkafólk, það væri nær að búa til störf fyrir menntað fólk.
Sigurbjörn Halldórsson

23. Mars 2003

Kennisetning Carters

Sæll Ögmundur. Ég lýsti því á dögunum að ég drægi í efa þekkinguna sem  ákvarðanir í utanríkismálum byggjast á. Ég er ekki að tala um skoðanir stjórnarmálamanna, tilfinningar þeirra, eða áróðursbrögðin sem þeir, og embættismenn þeim hliðhollir, beita. Ég er að tala um þekkinguna.
Ólína

23. Mars 2003

Morgunblaðsmenn og aðrir fréttaskýrendur!

Ég vil vekja sérstaka athygli fréttaskýrenda og að sjálfsögðu allra annarra á lesendabréfi sem birtist á heimasíðunni í dag og fjallar um Carter-kenninguna. Vísað er í bréf sem þrír háttsettir menn í stjórn Bush Bandaríkjaforseta rituðu Clinton þáverandi forseta Bandaríkjanna árið 1998 þar sem þeir hvöttu til árásar á Írak á grundvelli Carter-kennisetningarinnar en hún gekk út á að verja olíuhagsmuni Bandaríkjanna.

23. Mars 2003

Jón skorar á Davíð!!

Hér með skora ég undirritaður á Davíð Oddsson forsætisráðherra til umræðna á opinberum vettvangi um skattamál. Þar sem ríkissjónvarpið ber hlutleysisreglunni við – að endilega þurfi að draga alls kyns kverúlanta inn í okkar tveggja turna tal - hefi ég samið við sjónvarpsstöðina Omega um beina útsendingu frá fundi okkar sem ég helst mundi vilja að fram færi í Laugardalshöllinni enda má búast við fjölmenni.
Jón Bisnes

22. Mars 2003

Magnús og Sigríður Anna vilja stríð en það má ekki drepa neinn!!

Ég er hreinlega gáttaður á heimsku og dómgreindarleysi þingmannanna sem styðja árásina á Írak. Yfirlýsingar þeirra í fjölmiðlum eru með ólíkindum. Kinnroðalaust lýsa þau því yfir að þau styðji árás Bandaríkjamanna og Breta á Írak.
Grímur H.B.

21. Mars 2003

Einn í heiminum

Mikið held ég að mörgum hafi létt þegar Davíð Oddsson kom fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi til að skýra það út fyrir okkur hvernig Frakkar og allar hinar þjóðirnar misskilja Íraksmálið og hvernig Íslendingar hlutu að styðja árásirnar á Írak.

21. Mars 2003

Ekki í okkar nafni

Ræða flutt á útifundi á Lækjartorgi 20. mars.
Í ræðunni sem útvarpað var um heim allan á mánudag sagði George Bush Bandaríkjaforseti að ríkisstjórn sín væri friðsöm. En hún myndi aldrei láta beita sig ofbeldi; hún myndi aldrei láta hafa í hótunum við sig; aldrei láta stilla sér upp við vegg.

21. Mars 2003

Rauða málningin

Ömmi frændi, Varst þú nokkuð á ferð með rauða málningardollu í miðbænum seinnipartinn í gær?
Þinn, Össi.

21. Mars 2003

Efnahagsþvinganir

Sæll. Er fræðilegur möguleiki að BNA hefðu beitt einhverjum efnahagslegum þvingunum á Íslendinga ef ríkisstjórn landsins hefði ekki lagt blessun sína á yfirvofandi árás Rambush á Írak?
Grétar

21. Mars 2003

Þegar blautligur húsgangur verður að vinstrigrænni þjóðrembu

Ekki verður á fyrrverandi framsóknarmenn og núverandi flokksbræður þína logið Ögmundur. Nú hafa þeir kumpánar Jón Bisnes og Ormur á Kögunarhóli tekið gamlan húsgang úr hreppunum og snúið honum upp í níð um flokk Jónasar frá Hriflu eða Gunnar á hólmanum.
Fróði á Rofabarði

20. Mars 2003

Morgunblaðið og Martin

Stundum hef ég verið við það að trúa því að Morgublaðið ætli sér í alvöru að hasla sér völl sem frjálslynt stórblað. Vissulega á blaðið stundum góða spretti. Enginn fjölmiðill tekur eins vel upp hanskann fyrir geðfatlaða og Morgunblaðið. Enginn fjölmiðill er eins reiðubúinn að opna síður sínar fyrir hópum á borð við spilafíkla og tekur á þjóðfélagsmeinum af eins mikilli alvöru og alúð og Morgunblaðið gerir oft á tíðum. Sama á við þegar kastljósi er beint að ýmsum álitamálum í efnahagslífi þjóðarinnar.

20. Mars 2003

Það er fórnarlambinu að kenna

Birtist í Mbl. 19.03.2003
Það sem við stöndum frammi fyrir í Íraksmálinu er fyrst og fremst tæknilegt mál; þ.e.a.s. hvernig við förum að því að réttlæta innrás. Innrásin sjálf og stríðið er aftur á móti ekkert vandamál. Yfirburðir okkar, innrásaraflanna, eru svo algerir.

19. Mars 2003

Sendum þá til Íraks

Vaxandi reiði gætir nú hér á landi yfir fylgispekt íslensku ríkisstjórnarinnar við Bandaríkjastjórn. Ísland er í hópi 30 ríkja sem Bandaríkjstjórn telur upp sem sauðtrygga stuðningsmenn sína og forsætisráðherra Íslands lýsir því fjálglega yfir að Íslendingar hafi veitt "heimild til yfirflugs yfir íslenska flugumsjónarsvæðið.

19. Mars 2003

Gabriel Garcia Màrquez beinir orðum til Bush

Hinn heimsfrægi rithöfundur Gabriel Garcia Màrquez hefur ritað George Bush Bandaríkjaforseta áhrifamikið bréf sem ég birti hér í lauslegri endursögn Gunnars Grettissonar en þannig vill þýðandinn í hógværð láta orða snörun textans yfir á íslensku.

18. Mars 2003

Við mótmælum öll

George Bush Bandaríkjaforseti flutti síðastliðna nótt ávarp sem var útvarpað og sjónvarpað um allan heim. Hann sagði Sameinuðu þjóðirnar hafa brugðist. Bandaríkjamenn væru friðsöm þjóð en þeir ættu í höggi við skúrka sem réðu yfir gereyðingarvopnum, efnavopnum og einhvern tíma kjarnorkuvopnum (one day nuclear weapons).

18. Mars 2003

Ríkisstjórn Íslands er meðábyrg

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra tjáir sig talsvert um Íraksmálið og dregur ekkert af sér í fylgispekt sinni við Bandaríkjastjórn. Nýlega sagði utanríkisráðherra í fréttaviðtali að það væru hagsmunir Íslendinga að vestræn samvinna gengi vel. Þetta átti víst að vera réttlæting á undirgefni íslensku ríkisstjórnarinnar við herveldið í vestri.

18. Mars 2003

Viðvangingar í siðfræði

Fyrir sjálfstæða fullvalda þjóð er það umhugsunarefni að í embættismannaliði  utanríkisþjónustunnar virðist ekki vera þekking, menntun, eða upplýsing til að leiðbeina þegar utanríkispólitísk þekking og reynsla er af skornum skammti hjá hinu pólitíska valdi. Þetta kemur berlega fram í Íraksmálinu...
Ólína

18. Mars 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Enn um Írak

Þó að enn sé verið að ræða um Írak á vettvangi Sameinuðu þjóðanna virðist eins og Bandaríkjamenn séu tilbúnir og reiðubúnir til að fara út í þetta stríð án þess að samþykki SÞ sé, að þeirra mati, þörf. Það verður tiltölulega auðvelt að sannfæra almenning hér í Bandaríkjunum um réttmæti þessarar ákvörðunar enda hefur fólk hér, sérstaklega þeir sem eru hægra megin í pólítíkinni ekki mikið álit á þeirri stofnun.

18. Mars 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Enn um Írak

Þó að enn sé verið að ræða um Írak á vettvangi Sameinuðu þjóðanna virðist eins og Bandaríkjamenn séu tilbúnir og reiðubúnir til að fara út í þetta stríð án þess að samþykki SÞ sé, að þeirra mati, þörf. Það verður tiltölulega auðvelt að sannfæra almenning hér í Bandaríkjunum um réttmæti þessarar ákvörðunar enda hefur fólk hér, sérstaklega þeir sem eru hægra megin í pólítíkinni ekki mikið álit á þeirri stofnun.

18. Mars 2003

Eiga athafnaskáld erindi í krana?

Ég hlustaði á Bryndísi Hlöðversdóttur, þingflokksformann Samfylkingarinnar, í hádegisfréttum ríkisútvarpsins sunnudaginn 16. mars. Í tilefni frestunar Alþingis nefndi hún það sérstaklega hversu slæmt það hefði verið að Vinstri grænir hefðu komið í fyrir að vatnsveitufrumvarp ríkisstjórnarinnar næði fram að ganga.

18. Mars 2003

Rekunum kastað

Ég er sammála Jóni Bisnes um það að nú sé kominn tími til að þjóðin moki yfir minn gamla flokk, Framsóknarflokkinn. Hins vegar sætti ég mig alls ekki við að Jón þessi sýni ítrekað af sér það óþokkabragð í hnoði sínu að ganga í smiðju annarra.
Ormur á Kögunarhóli

18. Mars 2003

Vatnið okkar allra

Eiga athafnaskáldin eitthvað erindi í pípur,
verður einkavætt blávatnið svalara en nú?
Mun vatnið kalda sem úr krönunum drýpur
verða kraftmeiri næring en mjólk úr kú? 

Jón Bisnes

17. Mars 2003

Umskurður

Sæll Ögmundur.
Ég var að hlusta á kraftmikla ræðu þína í beinni útsendingu frá eldhúsdagsumræðum í sjónvarpinu. Flott og kraftmikil ræða. Ég hef fyrirspurn til þín. Ég las í Morgunblaðinu í morgun (12.mars) að Vinstri Grænir ætla að beita sér fyrir því að banna umskurð á stúlkubörnum á Íslandi.
Kveðja Hafþór

17. Mars 2003

Sjávarútvegsstefna VG

Sæll Ögmundur. Ég ásamt mínum skipsfélögum hef verið að velta fyrir mér sjávarútvegsstefnu hinna ýmsu stjórnmálaflokka,og það virðist vera að það séu bara frjálslyndir sem hafa "almennilega" stefnu í því máli að mér sýnist. Hvar standa Vinstri-grænir í því máli...
Með kveðju Arnar

17. Mars 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Hussein er ekki Írak og Írak ekki Hussein

Það er oft tilhneiging, eins og ég hef reyndar bent á í ræðu og riti, að persónugera stjórnmál Mið-Austurlanda. Þó að slík áhersla sé skiljanleg vegna þess að vissar persónur hafa verið mjög áberandi og “strong-man politics” er frekar einkennandi í stjórnarfari einræðisríkja, þá er þessi tilhneiging þó á margan hátt villandi.

14. Mars 2003

Framsóknarflokkurinn

Nú er landstólpi fallinn í dauðadá
og dóminn hinsta fær enginn flúið.
Hann er nú sem lítill steinn eða strá,
stríðið er tapað og senn er það búið. 
Jón Bisnes

13. Mars 2003

Breiðfylking launafólks gegn stríði



Í morgun komu forsvarsmenn allra helstu samtaka launafólks og samtakanna Átaks gegn stríði saman til að beina því til launafólks í landinu að efna til umræðu á morgun á öllum vinnustöðum landsins um yfirvofandi hernaðarárás Bandaríkjanna og Breta á Írak.

13. Mars 2003

Eldhúsdagsræða á Alþingi

Ræða flutt af ÖJ á Alþingi 12.03. 2003
Hinar pólitísku línur hafa verið nokkuð skýrar í flestum málaflokkum á liðnu kjörtímabili. Sex þingmenn töluðu í úrslitaumræðu um stóriðjuáformin. Sex þingmenn studdu tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð öræfanna norðan Vatnajökuls. Þetta voru að sjálfsögðu þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Þrír þingmenn til viðbótar höfðu áður lagst gegn  stóriðjuáformum ríkisstjórnarinnar og hafi þeir lof fyrir.

11. Mars 2003

Frábærir frjálsir pennar

Heill og sæll Ögmundur.
Ég tek undir með þér að greinarnar sem komu inn á heimsasíðuna í gær voru sannkölluð skyldulesning. Í rauninni langar mig til að óska þér til hamingju að fá svona magnaða skríbenta til liðs við þig. Ég vildi að allir læsu greinarnar eftir prestinn og sagnfræðinginn.
Með kveðju,
Guðfinna.

10. Mars 2003

Skyldulesning

Tvær nýjar greinar koma inn á heimasíðuna í dag, önnur eftir séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum sem á þráðbeint erindi við okkur og hin eftir Þorleif Óskarsson sagnfræðing þar sem forsætisráðherra, forsætisráðherrakandidat og Vinstrihreyfingin grænt framboð koma við sögu. Þá er rétt að vekja athygli á greinum Magnúsar Þorkels Bernharðssonar sem skrifar frá New York um Íraksmálið.

10. Mars 2003

Þorleifur Óskarsson skrifar: Hvernig á glíma við erfiða viðskiptavini?

Það var að sönnu mikið framfaraspor þegar einokunarverslunin var afnumin á Íslandi árið 1787. Einn alsnjallasti sagnfræðingur þjóðarinnar fyrr og síðar, dr. Björn Þorsteinsson, orðaði það svo á einum stað að þá hafi dánarvottorð hins gamla Íslands verið gefið út en jarðarförin tekið alllangan tíma.

10. Mars 2003

Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum skrifar:Make love not war

Margir þeirra stjórnmálamanna, sem andæft hafa stríðsáætlunum Bandaríkjamanna og Breta gegn Írak, fengu eldskírn sína á tímum Víetnamstríðsins. Engin stríðsátök síðari tíma hafa með sama hætti afhjúpað fáránleika stríðsins.

10. Mars 2003

Gagnrýni Davíðs Oddssonar vísað á bug

Davíð Oddsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins er nú greinilega orðinn hræddur um að valdaseta flokksins í Stjórnarráðinu sé á enda. Þá er gripið til gamalkunnugs bragðs og það er að beita hræðsluáróðri. Verði mynduð vinstri stjórn þá brenni sparifé landsmanna upp í óðaverðbólgu.

9. Mars 2003

Hugsjónir hafa aldrei slokknað innan Lúðrasveitar verkalýðsins

Þetta ávarp birtist í afmælisriti sem gefið var út í tilefni af
afmælistónleikum á 50 ára afmælisdegi Lúðrasveitar verkalýðsins 8. mars.  
Ávarp Ögmundar Jónassonar á hálfrar aldar afmæli Lúðrasveitar verkalýðsins:
Eftir því sem ég kemst næst mun Lúðrasveit verkalýðsins vera eina lúðrasveitin sem fram hefur komið undir nafni verkalýðssamtaka á Íslandi.

9. Mars 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar: Er stríðið hafið?

Það má segja að stríðið sé hafið. Það er að segja orðastríðið. Hatrammar
deilur eiga sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, milli forystumanna
Arabaríkjanna og meðal íraskra útlaga.

7. Mars 2003

Jón er þjófur!!

Jón Bisnes lætur gamminn geisa á síðunni þinni og þykist vera höfundur að vísukorni sem ég setti saman fyrir fáeinum árum og fékk birt í Hreppamanninum.
Fróði á Rofabarði

6. Mars 2003

Værðarvoðir frjálshyggjunnar

Gróðinn er bæði í ökkla og eyra
og enginn fær þar reist við rönd.
Ég fékk eitt teppi en forstjórinn meira,
fast að sextíu millum í aðra hönd.
Með kveðju,
Jón frá Bisnesi,

6. Mars 2003

Allir í bananastuði

Heill og sæll Ögmundur.
Mig dreymdi draum sem mig langar til að fá einhvern til að ráða. Mér fannst ég vera kominn á ríkisstjórnarfund. Allir ráðherrarnir voru mættir. Á enni hvers ráðherra var blátt merki. Það minnti mig á vörumerkið á Chiquita banönum...
Haffi

6. Mars 2003

Málum bjargað

Kona mælti kvelds í húmi
kossinn skaltu fá hjá mér
Árni Johnsen reddar rúmi
reyndu nú að flýta þér.

Gísli Sigurkarlsson

6. Mars 2003

Kárahnjúkaflokkarnir á móti

Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking sem veittu stóriðjuáformum ríkisstjórnarinnar brautargengi og heimiluðu Kárahnjúkavirkjun gengu enn lengra en flesta hefði grunað við afgreiðslu málsins á Alþingi í gær. Þessir flokkar höfnuðu einnig tillögu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta stórmál í tengslum við alþingiskosningarnar eftir tvo mánuði.

6. Mars 2003

Tillaga Jónasar

Birtist í Fréttablaðinu 05.03.2003
Um daginn hringdi í mig maður sem ég ber mikla virðingu fyrir. Hann er nokkuð við aldur og býr yfir lífsreynslu og visku. Tilefni þess að hann hringdi var nýfallinn úrskurður Jóns Kristjánssonar, þá setts umhverfisráðherra, um Þjórsárver.

5. Mars 2003

Ólína kveður sér hljóðs

Það eru alltaf tíðindi þegar hin vísi skríbent okkar hér á síðunni Ólína kveður sér hljóðs. Það gerir hún í dag undir liðnum Spurt og svarað. Hún beinir orðum sínum til Guðmundar Andra Thorssonar sem skrifar í DV í dag.

5. Mars 2003

Hugmyndafræðina á haugana

Guðmundur Andri Thorsson, prýðilegur penni, fjallar af velvilja um hlutverk jafnaðarmannaflokks í dagblaði í dag. Jafn lipurlega og að mörgu leyti skynsamlega sem GAT kemur hugsun sinni til skila í DV er hann gleyminn á , eða óupplýstur, um hugmyndafræði jafnaðarmannaflokksins sem hann vildi svo gjarnan að kæmist hér til valda...
Ólína

4. Mars 2003

Sanngirni Ómars sannfærandi

Birtist í DV 03.03.2003
Sjónvarpsmynd Ómars Ragnarssonar um þjóðgarða og virkjanir var áhrifarík. Ég hef þegar hitt fólk sem segist hreinlega hafa snúist í afstöðu til fyrirhugaðra virkjana við Kárahnjúka vegna myndarinnar.

4. Mars 2003

Eins og rófa fylgir hundi

Hlutskipti Íslendinga á vettvangi utanríkismála er ekki beysið þessa dagana. Okkar ríkisstjórn er engu betri en sú breska. Færa má fyrir því rök að sú breska hafi þó efni á að tala digurbarkalega. Hún sendir þó sína menn í dauðann. Íslendingar eru aðeins tilbúnir að senda annarra þjóða drengi í dauðann.

26. Febrúar 2003

Skammsýn framtíðarsýn - stefna Framsóknarflokksins í atvinnumálum

Birtist í Mbl. 26.02. 2003
Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram tillögur sem formaður flokksins segir að veikja muni stöðu ríkissjóðs um 15 milljarða. Stóriðjustefna í atvinnumálum muni hins vegar gefa svo mikið í aðra hönd að engu sé að kvíða. Grundvöllur sé að skapast fyrir þjóðarsátt um að gera stóriðjustefnu Framsóknarflokksins að hornsteini íslenska velferðarkerfisins. Sýn formanns Framsóknarflokksins á þungaiðnað sem akkeri íslenskrar atvinnustefnu fór ekki á milli mála á nýafstöðnu þingi flokksins. 

25. Febrúar 2003

Vafrað um á kaupþingi.is

Til umræðu í fjölmiðlum hafa verið launakjör forstjóra Kaupþings. Þau námu 70 milljónum króna í fyrra. Þar af voru 58 milljónir í kaupauka. Morgunblaðið á sunnudag upplýsir að 20% séu greidd í lífeyrissjóð. Síðan eru önnur vildarkjör tilgreind. En uppsagnarfresturinn er sex mánuðir. Mér skilst að það þyki þungir kostir. Og vissulega er svo borið saman við starfslokasamning Þórarins V. Þórarinssonar upp á tæpar 40 milljónir. Að sögn var það til að greiða fyrir tvö og hálft ár í starfi.

21. Febrúar 2003

Framsókn og forritin

Nú er kosningabaráttan að hefjast og frambjóðendur eru boðaðir á fundi og samkomur til að kynna áherslur sínar. Á síðustu dögum hef ég sótt tvo slíka fundi í Reykjavík, hinn síðari í gær hjá Kiwanis-mönnum sem buðu fulltrúum Framsóknar og VG til að greina frá helstu stefnumálum. Þetta voru bráðskemmtilegir fundir.

21. Febrúar 2003

Kröftugir klerkar

Grein séra Arnar Bárðar á heimasíðunni þótti mér góð. Hann gerir það sem mér finnst flestir prestar vanrækja: Að skoða samtímann undir kastljósi trúar og siðfræði. Prestum hættir því miður til að forða sér út úr samtímanum og virðist líða best í þokukenndum heimi þar sem ekki þarf að taka afstöðu – nema þá með almennu orðagjálfri...
Guðfinna

20. Febrúar 2003

„Nú verður lesið úr ársreikningum fyrirtækja“

Sæll Ögmundur. Gagnrýnislaus meðferð fjármálafregna í fjölmiðlum er farin að fara í taugarnar. Mér finnst að í þjónkunarskyni við viðskiptahagsmuni þeirra sem sýsla með fé annarra hafi nokkrir fjölmiðlar tekið uppá því að birta svokallaðar fjármálafréttir svo ótt og títt að enginn fréttatími virðist fullburða öðru vísi en ein eða tvær fjármálafréttir séu uppistaða eða meginstoð fréttatímans...
Ólína

20. Febrúar 2003

Magnús Þorkell Bernharðsson skrifar frá New York

Magnús Þorkell Bernharðsson hefur látið mjög að sér kveða í umræðunni um Írak enda manna fróðastur um málefni Austurlanda. Hann kennir við Hofstra háskólann í New York og er sérgrein hans nútímasaga Mið-Austurlanda.

20. Febrúar 2003

Magúns Bernharðsson skrifar: Bandaríkin, Evrópa, Tyrkland og Írak

Það er ekki endilega gaman að vera Evrópubúi í Bandaríkjunum um þessar mundir! Um helgina var ég staddur á bensínstöð og beið meðan að var verið að skipta um olíuna á bílnum mínum. Afgreiðslumaðurinn byrjaði að spjalla við mig um daginn og veginn.

20. Febrúar 2003

Magnús Bernharðsson skrifar: Lýðræðið í Írak og Bandaríkjunum og myndbönd Osama

Það er svo mikið um að vera, hvort um er að ræða í Evrópu, Bandaríkjunum eða í
Mið-Austurlöndum að ég hef varla haft undan að fylgjast með. Og það er af nógu að taka! En ég ætla þó að leggja áherslu á þrennt sem hefur kannski ekki verið svo mikið rætt um og það er: 1) lýðræði í Írak, 2) myndbönd Bin Laden, 3) stríðsáætlanir Bandaríkjanna.

20. Febrúar 2003

Á Jón einsamall að bera uppi boðaðar skattalæckanir veleðla hæstvirts ráðherra?

Áður hefi jeg ritað um meðferð veleðla forsætisráðherra á Íslands fátæklingum og mætti hafa um hana mörgum sinnum fleiri orð. Nú hefir hann einn ganginn enn reitt leiftursnöggt til höggs og lemur tómthúsmanninn Jón Ólafsson frá Norðurljósadal, varnarlausan - og ekki með reglustiku heldur með sjálfum veleðla skattrannsóknarstjóra...
Jón Snorrason,
Skakkakoti við Reikjavík

19. Febrúar 2003

Steinþór Heiðarsson skrifar: Minnispunktar fyrir stríðið

Yfirvofandi stríð gegn Írak er eins og gefur að skilja mál málanna á alþjóðavettvangi um þessar mundir. Eins og stundum áður eru röksemdir hinna vígglöðu stórvelda reistar á afar veikum grunni. Í samræmi við það er æði misjafnt dag frá degi hvað er helst tilgreint af ráðamönnum Bretlands og Bandaríkjanna sem ástæður og markmið yfirvofandi árásar.

19. Febrúar 2003

Menn kynni sér málin áður en þeir skjóta

Steinþór Heiðarsson sagnfræðingur skrifar í dag pistil þar sem hann varpar sögulegu ljósi á Írak. Það væri þess virði að íslenskir ráðamenn gæfu sér tóm til að hugleiða sögu Íraks og nánasta heimshluta síðustu áratugina.

18. Febrúar 2003

Spilafíklar eru venjulegir Íslendingar

Birtist í Mbl. 16.02. 2003
Í Morgunblaðinu 11. febrúar birtist grein eftir Kristbjörn Óla Guðmundsson stjórnarformann Íslenskra söfnunarkassa sf. Aðild að þessu kassasamlagi eiga SÁÁ, Rauði krossinn og Slysavarnafélagið Landsbjörg þar sem Kristbjörn er jafnframt framkvæmdastjóri. Tilefni skrifanna er augljóslega það sem hann kallar "sérstaklega ósmekklegar" ásakanir í garð aðstandenda spilavéla; fullyrðingar um að þeir noti sér “veikindi fólks til að halda úti starfi sínu".

18. Febrúar 2003

Örn Bárður Jónsson skrifar: Umdeildar lækningasamkomur og Vonsviknir fjárfestar

Á dögunum var hér lækningaprédikari frá Afríku, menntaður í Bandaríkjunum, Charles Ndifon. Skilja mátti auglýsingar þeirra er stóðu fyrir lækningasamkomum með honum að þeir allt að því lofuðu kraftaverkum. Landlæknir hefur gert alvarlega athugasemd við framgöngu þessara manna.

18. Febrúar 2003

Lækningasamkomur í Smáralind og Kuskið á hvítflibbanum

Séra Örn Bárður Jónsson er með skemmtilegri pennum þessa lands og Það sem meira er, hann er óhræddur að segja hug sinn, einnig um umdeild mál. Um miðjan janúar hélt séra Örn Bárður magnaða og eftirminnilega ræðu á Lækjartogi gegn stríði og í þágu friðar en tilefni fundarins voru stríðsáform Bandaríkjastjórnar gegn Írak.

15. Febrúar 2003

Halldór staðfastur

Enginn getur neitað því að Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sýnir óbilandi staðfestu í Íraksmálinu. Ekkert fær honum þokað. Hann virðist að vísu svolítið feiminn að segja það upphátt að hann telji varla þörf á því að Öryggisráðið komi saman að nýju til að álykta um heimild fyrir Bandaríkjaher að ráðast á Írak.

14. Febrúar 2003

Vísvitandi vanþekking Magnúsar og bakþankar Eiríks

Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á tveimur greinum eftir Þorleif Óskarsson  sagnfræðing um fjölmiðla hér á heimasíðunni. Annars vegar víkur hann að ummælum Magnúsar  Stefánssonar alþingismanns um ungt fólk í Fréttablaðinu 29. janúar.

13. Febrúar 2003

Glæpur og refsing- Athyglisverð umræða

Mjög athyglisverð umræða hefur farið fram hér á heimasíðunni um ýmsar hliðar réttarkerfisins og hafa mörg siðferðileg og heimspekileg álitamál verið vegin og metin. Umræðan kviknaði í kjölfar Hæstaréttardóms yfir Árna Johnsen fyrrverandi Alþingismanni.

13. Febrúar 2003

Umræður um afbrot og refsingar

Athyglisvert hefur verið að fylgjast með viðbrögðum í samfélaginu og á þessari heimasíðu við Hæstaréttadóminum um tveggja ára fangelsisdóm Árna Johnsen. Sumir telja dóminn of þungan m.a. Hafsteinn í ágætum pistli hérna fyrir stuttu þar sem hann telur dóminn allt of þungan í samanburði við ofbeldisbrot af ýmsu tagi.
Helgi Gunnlaugsson

12. Febrúar 2003

Einn hnípir eftir þegar annar deyr

Þeir slepptu Þjóðmenningarhúsinu. Stjórnarflokkarnir voru í ráðherrabústaðnum í gær, Davíð og Halldór. Þeir voru að kynna átak í atvinnumálum. Miðstýrt, hugmyndasnautt og strípað...
Ólína

12. Febrúar 2003

Er verið að afnema lýðræðið í heiminum?

Birtist í Mbl. 11. febrúar 2003
Á hverjum degi vöknum við upp við yfirlýsingar bandarískra ráðamanna eða helstu bandamanna þeirra um að tíminn sé útrunninn fyrir Íraka. Senn verði ráðist inn í landið. Nánast allt mannkynið andæfir. Skoðanakannanir um heim allan sýna að almenningur er andvígur árás á Írak. Aðeins lítill minnihluti fylgir bandarísku stríðsæsingamönnunum að málum.

12. Febrúar 2003

Þorleifur Óskarsson skrifar: Framsóknarmenn vanda ungu fólki ekki kveðjurnar

Magnús Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins gerir heldur lítið úr ungu fólki og skoðunum þess í Fréttablaðinu 29. janúar s.l. Tilefnið er að ungt fólk hefur verið áberandi í baráttunni gegn óskabörnum Framsóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar: Kárahnjúkavirkjun og álveri auðhringsins Alcoa í Reyðarfirði.

12. Febrúar 2003

Björgunarsveit Samfylkingarinnar komin á sporið

Að undanförnu hefur farið fram mikil leit að fátæku fólki hér á landi. Forsætisráðherra Samfylkingarinnar er kominn á sporið eins og hann kunngjörði á flokksráðstefnunni í Borgarnesi um helgina.

9. Febrúar 2003

Réttlæti, hefnd og hefð

Sæll Ögmundur. Þú spyrð skiljanlega um refsinguna og þjáningu fórnarlambsins. Ég er þeirrar skoðunar að aldrei sé hægt að ákvarða refsingu sem fall af þjáningu þolandans af því þjáningin er ekki algild heldur einstaklingsbundin. Ég er sömuleiðis þeirrar skoðunar að ekki sé hægt að setja algildar reglur um það hvernig samfélagið á að koma til móts við fórnarlömbin félags-og fjárhagslega eins og þú nefnir...
Hafsteinn

8. Febrúar 2003

Syndaaflausn eða sjálfsagt mál?

Birtist í Fréttablaðinu 7.02.2003
Samstöðufundir á Austurvelli í hverju hádegi frá því snemma í haust – í öllum veðrum – fjöldafundir, greinaskrif, umræður í fjölmiðlum og manna á milli; í fáum orðum, málafylgja í þágu umhverfisverndar, innan þings og utan, hefur skipt máli og hefur nú skilað árangri. Nýfallinn úrskurður um Norðlingaöldu ber þess vott að náttúruverndarsinnar eru í sókn.

7. Febrúar 2003

Harðneskjulegur dómur Hæstaréttar?

Sæll Ögmundur. Mér finnst hæstaréttardómurinn yfir Árna Johnsen harðneskjulegur. Hann braut vissulega af sér og á skilið refsingu, en hugsum þetta út frá refsingunni, tveggja ára fangelsisdómnum...
Hafsteinn

6. Febrúar 2003

Hjálmar og ogmundur.is

Birtist í Mbl. 5. febrúar 2003
Ekki veit ég hve margir lásu grein sem birtist í Morgunblaðinu s.l. laugardag eftir Hjálmar Árnason alþingismann. Ég las þessa grein og að öllum líkindum hafa margir starfsmenn Barnaspítala Hringsins lesið greinina því hún bar yfirskriftina Ögmundur og barnaspítalinn. Ekki verður beinlínis sagt að mér séu vandaðar kveðjurnar í þessari grein.

6. Febrúar 2003

Þorleifur Óskarsson skrifar: Að hverju beinast augu íslenskra fjölmiðla?

Bakþankagrein Eiríks Jónssonar um gleraugu þjóðþekktra manna í Fréttablaðinu 25. janúar s.l. varð til þess að skyndilega stóð ljóslifandi fyrir sjónum mínum gamall félagi minn úr sagnfræðinni, Þórður Þórðarson. Aðaláhugamál Þórðar voru gleraugu og af því markaðist vegferð hans á vettvangi fræðanna. Sérsvið hans varð gleraugnaeign og gleraugnanotkun merkismanna í sögu Íslands.

5. Febrúar 2003

Sturla axli ábyrgð

Á Alþingi hefur þess verið krafist að upplýst verði um starfslokasamning fyrrverandi forstjóra Landssímans hf. Þetta er sjálfsögð krafa. Þeim fjölgar dæmunum af forstjórum og stjórnarformönnum sem hygla hver öðrum með himinháum greiðslum þegar þeir skipta um starfsvettvang eða þegar þeim er skipt út; þegar þeir eru færðir til á taflborði valdastjórnmálanna.

4. Febrúar 2003

Úrlausn fyrir Byrgið strax

Ég hef búið í Byrginu í rúm fimm ár og verið starfsmaður þar í á þriðja ár. Mér er því vel kunnugt um hvað þar fer fram og um gagnsemi starfsins fyrir alla þá ógæfusama einstaklinga sem ánetjast hafa vímuefnum og fengið lausn á sínum vanda í ranni Byrgisins...
Með kveðju Konráð R. Friðfinnsson

3. Febrúar 2003

Það besta sem Háskóli Íslands býður upp á

Tveir félagsfræðidoktorar skrá sig fyrir handriti sjónvarpsþátta um þjóðmálaþróun á Íslandi á öldinni sem liðin er. Sá þeirra sem reyndari er og þroskaðri er dr. Ólafur Þ. Harðarson. Í þætti fyrir nokkru sagði dr. Ólafur litasjónvarpssöguna þekktu af Páli Péturssyni, félagsmálaráðherra. Þessi saga er fræg í  endursögn kosningasmala íhaldsins, enda nutu þeir þess á kostnað Páls, að segja bara hálfan sannleikann...
Ólína

31. Janúar 2003

Þorleifur Óskarsson skrifar: Eyðimerkurganga kjósenda

Stjórnmálin eru komin út á hála braut og að lýðræðinu er sótt úr ýmsum áttum. Fámennur hópur rembist við að snúa kosningunum í vor upp í einvígi milli einstaklinga. Önnur atlaga að lýðræðinu er einkavæðingin og dýrkun markaðsaflanna sem birtist í því að afhenda örfáum stóreignamönnum mikilvægar almannaeignir á silfurfati.

31. Janúar 2003

Vandi Byrgisins

Blessaður Ögmundur. Þú eins og aðrir landsmenn hefur eflaust lesið allar yfirlýsingar stjórnvalda, nú síðast Páls Péturssonar, um hvernig tryggja eigi starfsemina og ljúka því óvissu ástandi sem verið hefur í húsnæðismálum Byrgisins í Rockville...
Kveðja Jón Arnarr

30. Janúar 2003

Samorka, Sjónvarpið og staðreyndir um einkavæðingu

Í fréttum Ríkissjónvarpsins síðastliðinn sunnudag var vitnað í samantekt hjá Samorku þar sem því er haldið fram að rafmagnsverð í Svíþjóð og Noregi hafi ekki hækkað sem neinu nemur við markaðsvæðingu kerfisins. Hins vegar hefði skattlagning aukist verulega. Ekki kemur þetta heim og saman við yfirlýsingar norsku neytendasamtakanna sem segja hin „markaðsvæddu“ fyrirtæki hafa samráð sín í milli um að keyra verðlagið upp og nú „háfi“ þau inn milljarða í gróða á kostnað notenda.

28. Janúar 2003

Um olíu og efnavopn

Skyldu íslenskir fylgismenn haukanna í Washington almennt vita að aðeins eitt ríki í veröldinni býr við meiri olíuauðlegð en Írak? Í grein sem James A. Paul framkvæmdastjóri Global Policy Forum birti í desember sl. kemur fram að vitað sé um að olíumagnið í jörðu í Írak sé í tunnum talið 112,5 milljarðar og að sérfræðingar telji að miklar líkur séu á að þessar birgðir séu í reynd miklu meiri. Hugsanlega  um 250 milljarðar tunna. Ef þetta er rétt standa Írakar Saudi Aröbum jafnfætis varðandi olíuauðæfin.

27. Janúar 2003

Hvers á Hagfræðistofnun að gjalda?

Komdu sæll Ögmundur.
Þakka þér fyrir greinarnar um spilavítin sem birst hafa í blöðum að undanförnu og síðan einnig á heimasíðunni. Ekki fannst mér stórmannlegt af aðstandendum spilakassanna að reyna strax eftir að sjónvarpið sýndi frábæra heimildarmynd um spilafíkn fyrir nokkrum dögum að gera lítið úr vandanum...
Helga

27. Janúar 2003

Framsókn byrjuð að klippa á borðana

Hjálmar Árnason alþingismaður tók sig einstaklega vel út við opnun Barnaspítala Hringsins í gær og var Framsóknarflokknum til mikils sóma. Hjálmar var formaður byggingarnefndar og því eðlilegt að hann kæmi fram við þessi tímamót fyrir hönd skattborgaranna.

27. Janúar 2003

Ellert leiðréttur

Ellert B. Schram er kominn á fullt í kosningabaráttuna. Veri hann velkominn. Í fjölmiðlum hafa menn verið að velta yfir því vöngum hvort Ellert muni segja sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir að hann tók ákvörðun um að setjast á lista Samfylkingarinnar í komandi Alþingiskosningum. Þetta kemur Ellert, Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni einum við.

24. Janúar 2003

Impregilo, breska þingið, mútur og spilling

Í Brennidepli í gær er vitnað í fréttaflutning af tilraunum fulltrúa Impregilo til að bera sakir af fyrirtækinu um að það tengist spillingu og mútum. Einkum var stuðst við frétt Morgunblaðsins í gær. Ég hvet fréttamenn til að lesa það sem sagt er í þessum stutta Brennidepilspistli um útboðin og mikilvægi þess að útboðsgögnin verði gaumgæfð. En aftur að ásökunum um mútur og spillingu. Í breska þinginu eru starfandi fjölmargar nefndir, þar á meðal nefnd sem kallast The International Development Committee og hefur það hlutverk að fylgjast með ráðuneyti alþjóðlegrar þróunar eða The Department for International Development.

23. Janúar 2003

Fjárhættuspil verði bönnuð

Sæll,Ögmundur, ég ætlaði ekki að spyrja þig að neinu, en mig langaði að þakka þér fyrir öflugan stuðning og skilning gagnvart spilafíkn, og hvetja þig til að halda áfram að leggja þessu lið, s.s að fjárhættuspil verði bönnuð í framtíðinni í landinu, eins og lögin segja reyndar að þau séu. Bestu kveðjur
Magnús

23. Janúar 2003

Impregilo og útboðsgögnin

Talsmaður ítalska fyrirtækisins Impregilo segir ásakanir á hendur fyrirtækinu um mútugreiðslur ekki eiga við rök að styðjast, hvorki í Lesotho, Argentínu, Gvatemala né Tyrklandi. Í tengslum við verkefni í öllum þessum löndum hafa komið fram ásakanir um mútugreiðslur.

23. Janúar 2003

Er hægt að banna spilakassa?

Ég er því hjartanlega fylgjandi að banna með öllu spilakassa. En spurningin er hvort það verði einhverntímann hægt. Hvar á að draga mörkin ? Munu forsvarmenn spilakassanna ekki setja fram rök eins og : Hvað með lotto, happaþrennu, tipp og líklega má lengi telja?
Bestu kveðjur Orri Hermannsson 

20. Janúar 2003

Þorleifur Óskarsson skrifar: Foringjarnir með hjarðir sínar

Margt misjafnt hefur verið sagt um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur eftir að hún afréð að taka 5. sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður sem leiddi til þess að hún varð að segja af sér embætti borgarstjóra...

20. Janúar 2003

Þarf frekar vitnanna við?

Birtist í DV 20.02.2003
Í gærkvöldi var sýndur áhrifamikill sjónvarpsþáttur um spilafíkn í ríkissjónvarpinu. Þar fékkst staðfest sem andstæðingar spilakassa hafa haldið fram um nokkurt árabil: Spilafíknin hefur sært margan einstaklinginn og fjölskylduna holsári. Fólk hefur tapað aleigunni og gott betur. Fjölskyldur hafa sundrast og einstaklingar jafnvel tekið líf sitt, svo mikið hefur þeim þótt svartnættið fram undan.

19. Janúar 2003

Sýnum Framsókn miskunnsemi

Siv Friðleifsdóttir segir, í ljósi fylgishruns Framsóknarflokkksins, að nú sé ekkert annað að gera en setja upp “boxhanskana og fara út á akurinn” til að komast í meira návígi við kjósendur. Ég segi nú bara eins og flokksbróðir hennar, fornkappinn Guðni, að “allir sem hafa heyrn hljóta að sjá” að hún er hreinlega að hóta kjósendum og kann það aldrei góðri lukku að stýra...
Kveðja, Egill Skallagrímsson

19. Janúar 2003

Siðfræðistofnun fái Hlemm

Birtist í Mbl. 18.01.2003
Margar helstu þjóðþrifastofnanir og samtök þjóðfélagsins sækja rekstrarfé sitt í hagnað af spilakössum. Það á við um Háskóla Íslands, Rauða krossinn, Landsbjörg og SÁÁ.

19. Janúar 2003

Valgerður og George

Birtist í Fréttablaðinu 18.01.2003
Segja má að ríkisstjórnir Íslands og Bandaríkjanna séu að sumu leyti í svipuðum sporum staddar að því leyti að báðar eru gagnrýndar fyrir hernað – önnur gegn Írak, hin gegn hálendi Íslands. Báðar hafa orðið að sæta tilfinningaþrungnum mótmælum heima og heiman. En það er annað sem er sameiginlegt. Valgerður Sverrisdóttir og George Bush líkja því nánast við landráð að hafa í frammi mótmæli.

17. Janúar 2003

Hvað viljiði þá? Hvað viljiði í staðinn fyrir virkjun og álver fyrir austan?

Menn hafa verið að lýsa eftir sáttum. Menn hafa farið þess á leit að stríðandi fylkingar slíðruðu sverðin. Menn hafa sagt: Nú hefur ákvörðun um virkjun og álver verið tekin og við verðum að horfa fram á veginn...
Ólína

17. Janúar 2003

Pétur Gunnarsson skrifar : Orð út í bláinn

Til hamingju með heimasíðuna, Ögmundur. Að vísu fer ég  aldrei ótilneyddur inn á vefsíður, ég verð helst að hafa stafi á blaði, geta flett aftur á bak og áfram, flutt lesmálið á milli herbergja, lagst út af með það, stungið því í vasann, merkt við, strikað undir.

17. Janúar 2003

Treystum við Birni og Alcoa?

Sæll Ögmundur. 
“Enginn getur með rökum dregið traust viðsemjenda okkar í efa.” Þetta sagði Björn Bjarnason, í umræðum í borgarstjórn þann 16. janúar sl. þegar til umræðu voru tryggingar Reykjavíkurborgar á lánum vegna Kárahnjúkavirkjunar...
Palli

13. Janúar 2003

Flokkseigendur og fólk

Blessaður Ögmundur. Frá blautu barnsbeini hef ég verið jafnaðarmaður. Sú jafnaðarstefna sem ég hef aðhyllst hefur byggst á tveimur algerlega óaðskiljanlegum þáttum: Baráttu fyrir félagslegu og efnalegu réttlæti annars vegar og heiðarlegum, opnum og lýðræðislegum vinnubrögðum hins vegar. Sannast sagna setur mig nú hljóðan við það sem er að gerast innan vébanda Samfylkingarinnar;...
Hafsteinn

12. Janúar 2003

Sveik hún?

Kastljós ríkissjónvarpsins kynnti fyrir helgina Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra með kostulegum hætti. Ekki veit ég hvort þú sást þáttinn Ögmundur en hann var að mörgu leyti merkilegur af því þar sá maður glitta í innyflin á umhverfisráðherra sem er dottin út af þingi ef marka má skoðanakannanir...
Hafsteinn

12. Janúar 2003

Landsbankinn og Raufarhöfn

Sæll Ögmundur.
Við erum strax farin að sjá hvað einkavæðing bankanna þýðir í raun. Raufarhafnarhreppi sem er sveitarfélag í fjárhagsvanda hefur verið neitað um almennt lán til hafnarframkvæmda hjá Landsbanka Íslands sem hefur verið viðskiptabanki sveitarfélagsins öðruvísi en í formi yfirdráttar á okurvöxtum...
Bjarni

10. Janúar 2003

“Hópur” athafnaskálda kaupir hálfan banka

Sala Landsbankans er ekki einvörðungu til marks um varasama stefnu í bankamálum þjóðarinnar, um einkavæðingarstefnu núverandi ríkisstjórnarflokka og endurtekið klúður við sölu á eignum almennings. Hún segir ekki síður ævintýralega sögu um þá vaxandi misskiptingu sem litið hefur dagsins ljós hér á landi á undanförnum árum...
Þorleifur Óskarsson

10. Janúar 2003

Þjóðbanki í hendur athafnaskálda

Í lesendadálkinum í dag birtist grein eftir Þorleif Óskarsson sagnfræðing þar sem hann bregður ljósi á sölu þjóðbankanna. Sjónarhornið er ekki hið sama og við eigum að venjast úr fjölmiðlaumræðunni hér og væri betur ef fleiri kæmu auga á þá fleti sem bent er á í greininni.

10. Janúar 2003

Hvernig ríkisstjórn?

Sæll Ögmundur.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Dagblaðsins eru þrjú stjórnarmynstur helst inn í myndinni: Samstjórn Samfylkingar og Framsóknarflokks, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og loks áframhaldandi samstarf núverandi ríkisstjórnarflokka...
MBK, Þorsteinn

10. Janúar 2003

Um Prófessor, Kárahnjúkajöfnuna og sofandi fréttamenn

Sæll Ögmundur.
Mér fannst mjög skrítið í fyrrakvöld að hlusta á Prófessorinn, fulltrúa ríkisins  í sérfræðinganefndinni sem falið var að fara yfir Kárahnjúkajöfnuna sem Landsvirkjun setti upp með þeim breytum sem þeim þóknaðist...
Bjarni

9. Janúar 2003

Mikil lukka með Landsbankann

Kæri Ögmundur.
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra lýsti á gamlársdag yfir mikilli ánægju með stærstu einkavæðingu Íslandssögunnar eftir að skrifað hafði verið undir samninga um sölu Landsbankans...
Kveðja Arnar

9. Janúar 2003

Stríð og friður

Sæll Ögmundur.
Ef mynduð verður vinstristjórn eftir næstu kosningar, myndi VG halda uppi mótmælum gegn stríðsáformum Vesturlanda, og mynduð þið getað starfað í ríkisstjórn sem styddi stríð úti í heimi?
Héðinn Björnsson 

8. Janúar 2003

Hissa á fjölmiðlum

Sannast sagna er ég hissa á íslenskum fjölmiðlum að standa ekki betur vaktina en raun ber vitni gagnvart fyrirhugaðri Kárahnjúkavirkjun. Ráðherrar eru ítrekað látnir komast upp með hrein ósannindi í yfirlýsingum sínum, að ekki sé minnst á hróplegar mótsagnir í málflutningi.

8. Janúar 2003

Ánægja með viðbrögð

Þegar ég opnaði þessa heimasíðu fyrir fáeinum vikum hefði mig aldrei órað fyrir hve viðbrögðin yrðu jákvæð. Í fyrsta lagi kemur í ljós að mikill fjöldi fólks fylgist með síðunni. Í öðru lagi er hún að verða kröftugur umræðugrundvöllur. Lesendabréf streyma inn á síðuna stríðum straumi og að mínum dómi eru þau mjög áhugaverð og sum og reyndar flest sérstaklega vel skrifuð og kveikja í mönnum og hvetja þannig til frekari umræðu. Þá er til sögunnar kominn sérstakur dálkur um fjölmiðla þar sem frjálsir pennar láta til sín taka.
Séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum ríður á vaðið og sannast sagna er ég mjög stoltur af því að sá mæti maður skuli reiðubúinn að leggja orð í belg á síðunni.

7. Janúar 2003

Verður lokað á heilabilaða á Landakoti?

Birtist í Mbl. 6. 01.2003
Fyrir jólin berst okkur mikið blaðaefni og hætt við því að sitthvað áhugavert fari fram hjá okkur. Föstudaginn 19. desember birtist í Morgunblaðinu afar góð og upplýsandi grein eftir Hönnu Láru Steinsson félagsráðgjafa heilabilunareiningar LSH á Landakoti. Vonandi hefur greinin náð athygli sem flestra. Í henni er fjallað um skerðingu á þjónustu við aldraða með heilabilun og vakin athygli á því að ekki standi til að opna eftir áramótin deild fyrir slíka sjúklinga sem lokað var, tímabundið að sögn stjórnvalda, í ágúst síðastliðnum.

7. Janúar 2003

Er betra að selja bjór en fisk?

Fulltrúar einkavæðingarflokkanna, og má þá ekki gleyma forystumönnum Samfylkingarinnar, halda vart vatni yfir vel heppnaðri sölu á Landsbankanum. Í því sambandi hefur mikið verið um það rætt hversu merkilegir Samsonarnir séu því þeir séu með kaupunum að færa erlent fjármagn inn í landið...
Með kveðju, Sigurður Árnason

7. Janúar 2003

Sauðafréttagærur

Álitsgjafar og fréttamenn hafa gert sér far um að upphefja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fráfarandi borgarstjóra Reykjavíkur, sem kosin var sem frambjóðandi Framsóknarflokksins, óháðra, Samfylkingingarinnar og Vinstri grænna í fyrra á kostnað Össurar Skarphéðissonar, formanns Samfylkingarinnar.Álitsgjafar og fréttamenn hafa gert sér far um að upphefja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fráfarandi borgarstjóra Reykjavíkur, sem kosin var sem frambjóðandi Framsóknarflokksins, óháðra, Samfylkingingarinnar og Vinstri grænna í fyrra á kostnað Össurar Skarphéðissonar, formanns Samfylkingarinnar.
Ólína

6. Janúar 2003

Enn einn stórsigur ríkisstjórnarinnar

Birtist í Fréttablaðinu 4. janúar
Um áramótin kom Valgerður Sverrisdóttir bankamálaráðherra fram í fjölmiðlum til að greina þjóðinni frá nýjustu sigrum ríkisstjórnarinnar. Nú var það salan á þjóðbankanum, Landsbanka Íslands, sem gladdi hjarta ráðherrans:

6. Janúar 2003

Samfylkingin samfagnar Samsonum

Blessaður Ögmundur.
Mér ofbauð að heyra afstöðu varaformanns Samfylkingarinnar Margrétar Frímannsdóttur í Kastljósþætti Sjónvarpsins í gær til sölu Landsbankans...
Kveðja, Anna Björnsdóttir

3. Janúar 2003

Rótlaus - í leit að sjálfsmynd

Þegar forsetinn talar þá hlustum við. Þannig er það og þannig á það að vera. Og þegar forsetinn fjallar um mál sem hann ætti, menntunar vegna og fyrri starfa, að geta boðið upp á skýr svör og hnífskarpa greiningu þá ber okkur þegnunum að leggja við hlustir því hér talar maður sem vill veita leiðsögn...
Ólína

3. Janúar 2003

Össur í forsæti, Ingibjörg kúla og Þórólfur smyrsl

Þrátt fyrir þá stórskotabyssu sem Samfylkingin eignaðist á dögunum hefur Össur Skarphéðinsson lýst því yfir að hann verði áfram formaður fylkingarinnar og jafnframt forsætisráðherraefni hennar...
Brandur

3. Janúar 2003

Össur í Búlgaríu og Björgúlfarnir líka

Sæll Ögmundur.
“Aftur sækir hor í nös” segir máltækið og á það vel við um formann Samfylkingarinnar þessa dagana. Í útvarpinu í gærkveldi (2. jan.) átti hann vart orð til að lýsa ánægju sinni yfir sölu Landsbankans og í morgusárið var hann aftur mættur í stúdíóið til að mæra vini sína, Björgúlfana. Lá nú leiðin alla leið til Búlgaríu – þangað sem Íslendingar fóru forðum til að kaupa sér falskar tennur á spottprís...
Kristinn

2. Janúar 2003

Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum skrifar:


Fjölmiðlar um áramót
Um áramótin hlustar þjóðin á landsfeðurna í fjölmiðlum og menn skiptast á skoðunum að því loknu og ræða málið sín á milli. Löngum hafa það verið ávörp forseta Íslands og forsætisráðherra, sem vakið hafa umræður manna á meðal, en einnig áramótakveðja útvarpsstjóra, fyrir því er löng hefð hér á landi og áhugaverð.

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EÐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLÆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAÐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AÐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERÐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóðin mín:

Allar greinar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta