Fara í efni

Greinar

  • 19.04.2026

    JOHN Y. JONES KYNNIR UMHEIMINN

    ... Glenn Diesen er afkastamikill fræðimaður, rannsakar með öðrum orðum sjálfur en ræðir auk þess við aðra rannsakendur. Hann fer ekki hinar troðnu slóðir meginstraumsfréttamiðla heldur leitar hann uppi gagnrýnar raddir ... Höfundur greinarinnar, John Y. Jones, er svo kapítuli út af fyrir sig, einn helsti framherji norrænnar friðarhreyfingar en myndin að ofan er frá því í desember síðastliðnum þegar hann sæmdi Francescu Albanese ...
  • 18.04.2026

    HÉRAÐSDÓMUR OG LANDSKJÖRSTJÓRN

    Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 18/17.04.26. ... En nú fóru margir að spyrja eins og menn gera í landi Trumps þessa dagana, hvað sé til bragðs að taka í réttarríki sem hættir að virða eigin lög og reglur - gerir þær þar með að engu, ekki bara ríkisvald og stjórnsýsla, heldur einnig stofnanir á borð við lífeyrissjóði sem starfa í skjóli laga ...
  • 16.04.2026

    ÞRENGT AÐ KÚRDUM - SARAH GLYNN IN SOUND AND WORD

    Söruh Glynn hef ég áður kynnt til sögunnar en hún starfar í Strassborg í Frakklandi og er í nánum tengslum við fulltrúa Kúrda sem þar halda til í því augnamiði að ná eyrum Evrópuráðsins – Council of Europe. Gleggri greinandi er vandfundinn! Í nýjasta pistli hennar frá því um síðustu helgi fer hún yfir þrönga stöðu Kúrda ...
  • 10.04.2026

    NÚ ER ÞAÐ LANDBÚNAÐUR OG ESB TIL UMRÆÐU FYRIR NORÐAN

    ... Fundurinn er hugsaður sem upplýsingafundur en jafnfram til þess sniðinn að efla baráttu gegn því að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið. Ljóst er að þeim fer fjölgandi sem leggjast gegn slíku ráðslagi sem í reynd yrði óafturkræf um langa framtíð. ...
  • 10.04.2026

    HAFA SKAL ÞAÐ SEM SANNARA REYNIST – LÍKA UM LANDBÚNAÐARMÁL

    Birtist í Húnahorninu 08.04.26. … Og að sjálfsögðu hafa allir rétt á því að halda fram sinni skoðun. En skoðanir sínar hljóta menn að vilja byggja á staðreyndum. Landsmenn hljóta að geta sameinast um það að vilja hafa það sannast reynist í hverju máli. ​Umræðan um Evrópusambandið er því miður ekki komin þangað …
  • 09.04.2026

    RÍKISSTJÓRNIN KOMI HREINT FRAM Í EVRÓPUSAMBANDSMÁLINU – RÝNT Í LANDBÚNAÐINN

    Birtist í Vikubaðinu 07.04.26. ... En það er annar pakki sem er ekki síður áhugaverður en pakkinn í Brussel. Það er pakki þeirra Kristrúnar, Þorgerðar Katrínar og Ingu Sæland. Sú síðastnefnda flutti ásamt þingmönnum Flokks fólksins sex sinnum svohljóðandi þingsályktunartillögu á Alþingi, síðast á þinginu 2024 -2025: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu“. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði aðildarumsókn ekki á dagskrá – „alveg satt“ sagði hún, „bannað að plata“ og Þorgerður Katrín, sem skrifar án afláts undir skuldbindingar Íslands ...
  • 07.04.2026

    JEFFREY SACHS UM TRUMP OG NETANJAHU – OBLIGATORY READING BY JEFFREY SACHS!

    ... Þessi hugsun leitar á hugann nú þegar við okkur blasa tveir einstaklingar með nánast alræðisvöld, Trump Bandaríkjaforseti og Netanjahu, forsætisráðherra Ísraels, sem hvorugan er hægt að líta á sem heilbrigðan mann samkvæmt því sem okkur hefur verið kennt og innrætt flestum hverjum ...
  • 04.04.2026

    SÆLIR ERU FRIÐFLYTJENDUR

    Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 04/05.04.26. ... En hver skyldi þá vera hinn raunverulegi óvinur sem er að verða þess valdandi að um alla Evrópu er að takast að koma efnahagskerfum landanna „í stríðsham“ eins og forseti leiðtogaráðs ESB hefur boðað? Það skyldi þó aldrei vera að hinn raunverulegi ógnvaldur sé okkur nær en við ætlum ... (English translation) ...
  • 03.04.2026

    MÆLI MEÐ DAGFARA

    ... Hernaðarandstæðingar segjast vera að vinna að eigin öryggismálastefnu og sé þess að vænta að hún líti fljótlega dagsins ljós. Enda veitir ekki af samkvæmt formanni samtakanna Guttormi Þorsteinssyni. Hann segir í skorinorðum leiðarapistli sinum: „Stefnt er að hervæðingu íslensks samfélags, iðnaðar og menntakerfis. Þessu verðum við að standa gegn.“ ...
  • 02.04.2026

    SARAH GLYNN SEGIR FRÉTTIR FRÁ KÚRDISTAN

    ... Pistlar Söruh Glynn um stöðu mála í Kúrdistan eru mjög áhugaverðir. Í síðasta pistli sínum fer hún yfir stöðu mála í Írak og Sýrlandi eftir að árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran hófust og Íranir tóku að svara fyrir sig. Þetta hafi síðan magnað upp ófrið og erjur langt út fyrir landamæri Írans ... see English ...
  • 01.04.2026

    LANDBÚNAÐARMÁL ERU ÖRYGGISMÁL OG TIL UMRÆÐU Í KAKALASKÁLA

    Birtist í Feyki 01.04.26.... Þá er fram hjá því horft að umsóknarbeiðni Íslands var afturkölluð árið 2015. Að auki má nefna að veigamestu kaflarnir í aðlögunarviðræðunum ... voru aldrei opnaðir ... Í greininni í Feyki er fjallað um fyrirhugaðan fund um þessi efni í Kakalskála í Skagafirði ... minni ég á það að framleiðsla á heilnæmum matvælum snúist um lýðheilsu þjóðar ... og sé öryggismál ...