... Mér fannst málverkið um margt skemmtilegt, tilfinningaþrungið og litríkt eins og Færeyjar og Færeyingar birtust mér í vikulangri heimsókn til Færeyja sem stóð fram á nýliðinn fimmtudag ...
Í dag, föstudaginn 23. október, rennur út frstur til þess að senda inn umsögn til Alþingis um bókun 35, sem svo er nefnd. Ég lét ekki undir höfuð leggjast að senda inn umsögn og birti ég hana hér að neðan ...
Augljóst er að alþingismenn sem ganga erinda fíkni-iðnaðarins en beita sér á sama tíma fyrir rýmkun aðgengis ungmenna að áfengi og öðrum fíkniefnum, hafa gengið fram af mörgu fólki. Ég er í þeim hópi. En ég er líka einn þeirra sem gleðst yfir því að til skuli vera fólk eins og Lára Sigurðardóttir sem ...
Árni Guðmundsson, háskólakennari og æskulýðsfrömuður, krefur alþingismenn svara um mótsagnir í málflutningi þeirra, þeir kalli eftir forvörnum fyrir börn og ungmenni gegn áfengis- og vímuefnum en tali jafnframt máli áfengisiðnaðarins og styðji lagabreytingar í hans þágu; lagabreytingar sem ganga þvert á þessi markmið ...
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 17/18.10.26.
Fyrr á þessu ári tók ég þátt í rannsóknarleiðangri til Rojava, til skamms tíma sjálfsstjórnarhéraðs Kúrda í norðanverðu Sýrlandi. Sjálfsstjórnin var við lýði frá árinu 2012 og varði fram á þetta ár en er nú svipur hjá sjón eftir valdaskipti í Damaskus. Í hálfan annan áratug höfðu Kúrdar notið eins konar friðarsamkomulags við Sýrlandsstjórn sem var aðþrengd vegna átaka við sameiginlegan óvin ...
... Ég sagði jafnframt að annað veifið birtust sem betur fer skrif þar sem talað væri í gagnstæða átt. Dæmi um þetta er «skoðunargrein“ sem Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar á Vísi.is síðastliðinn fimmtudag ...
... Síðar þann sama dag hélt Jeffrey Sachs, prófessor við Columbiaháskólann í New York þar erindi um stöðu heimsmála. Fundurinn var alllangur en fróðlegur ... fór Sachs af nákvæmni yfir yfirlýsingar gefnar við upplausn Sovétríkjanna og fyrirheit sem þá voru gefin um að NATÓ færði sig ekki austur á bóginn – fyrirheit sem öll voru svikin illu heilli ...
Hinn tólfta þessa mánaðar bauð Arnþrúður Karlsdóttur mér til viðræðu um heimsmálin á Útvarpi Sögu. Við ræddum um stríð og frið og drauma Íslendinga til þess að fá grætt á stríðsrekstri því eins ótrúlegt og það má nú vera er einmitt verið að skoða það ...
Þessi mynd mun vera á sögusýningu í Höfða. Hún var tekin 10. október árið 1986, fyrir réttum 40 árum upp á dag. Gorbatsjof leiðtogi Sovétríkjanna var mættur til Íslands til fundar við Reagan Bandaríkjaforseta í Höfða í Reykjavík að ræða afvopnun. Friðarhreyfingar höfðu feykt þeim þangað inn til þess að ræða um ...
... Það voru heildarregnhlífarsamtök Kúrda - KNK – Kurdish National Kongress sem skipulögðu ráðstefnu í Brussel síðastliðinn laugardag þar sem þessi krafa var sett fram og munu samtökin í kjölfarið beita sér fyrir átaki á heimsvísu um að afla henni fylgi...
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 03/04.10.26.
Almennt er byrjað á stóru myndinni vilji menn skilja hina smærri. Horft er til Trumps, Xis, Pútins, Carney og Von der Leyen. Löngu síðar kemur að Mette Frederiksen og Þorgerði Katrínu. Og löngu, löngu síðar að mér og þér. En ef við nú byrjum á mér og þér ...?