21.11.2026
EINAR MÁR ER SKÁLD MEÐ SKOÐUN
... Einar Már hafði skoðun og þótt hún væri þvert á hið viðtekna hélt hann sig við hana, skrifaði Hvítu bókina sem auðveldaði vinstri mönnum að endurstilla kompásinn. Nú er heldur betur þörf á slíku á nýjan leik, allt gerist nú falt, vatn og rafmagn – þar eru milliliðir nú orðnir á annan tuginn og rafmagnsreikningarnir eftir því; útsýni til fjalla og nálægð við hveri og fossa skal gjaldskyld, hervæðing er orðin mál málanna og gagnrýni á allt þetta komin í mýflugumynd. Og þá verður mér hugsað til Einars Más ...